Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Page 1

Hannesar saga Grásteins 8. bók HANNES GRÁSTEINN VILLIKÖTTUR Á SKRIFSTOFU Í VESTURBÆNUM lesum myndir, lesum stuttan texta, lesum langa sögu. Hannesar saga Grásteins er sönn saga um viðburði á kattarævi.

4.útgáfa Freyjukettir, Norræn menning Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


Hannes Grásteinn villiköttur

á skrifstofu í vesturbænum


Hannes Grásteinn hefur farið mjög langt.

Surtarbrandur bróðir hans og við öll leitum hans.

Hvar er Hannes?


Viku eftir viku spyrjumst við fyrir um hann í nágrenninu, -- en án árangurs.

Hannes varð kynþroska rúmlega fjögurra mánaða, og lagði út í hina stóru veröld á eigin spýtur.

Hannes villiköttur.


Við vitum ekki ..... ..... að vestur á Melum er gulur villiköttur, sem ber öll einkenni flækingsins: rytjulegur, svangur, styggur og tortrygginn. Þetta er Hannes. Hann er ekki lengur feitur, værukær, áhyggjulaus heimilisköttur. Hann svæfir ekki lítil börn í hlýju rúmi á kvöldin.

Sjálfstæðið er kattarins innsta eðli. Það verður ekki bælt.


Við Bændahöllina sér Hannes köttur stúlku, sem honum geðjast að. Þetta er Sigga. Hún stígur hér út úr bílnum sínum. Hún vinnur á skrifstofu í þessu risastóra húsi.

Hannes og Sigga. Siggu þykir furðulegt að gulur köttur skuli koma hlaupandi til hennar og vilja láta gæla við sig. En hún má ekki verða of sein í vinnuna.


Hannes skýst inn í Bændahöll með Siggu.

Hannes fer inn.

Hann eltir hana alla leið upp á skrifstofu. -Hvað er að þér, kisa litla?


Fólkið skilur ekki hvað Sigga er að gera með þennan gula mjóa kött í vinnunni. Hannes fær mjólk á undirskál, þegar fólkið er í kaffi.

Hann fær mjólk. Síðan hoppar hann upp í kjöltu Siggu og sofnar þar!

Klukkan fimm hættir fólkið að vinna. Sigga tekur köttinn út með sér. En hann er ekkert á því að láta skilja sig eftir. Þegar Sigga opnar bílhurðina,


stekkur Hannes upp í.

Hannes í bíl -- Siggubílnum. Hann ætlar með henni. Sigga verður nú dálítið vandræðaleg: -Heyrðu, kisa mín. Ert þú eitthvað villt? Sigga ekur með Hannes á nokkra staði í nágrenninu, og reynir að láta hann út. Hún spyr alla krakka sem hún hittir, en enginn kannast við köttinn. Sigga losnar ekki við þennan kött.


Hann situr sem fastast í bílnum hennar. Sigga er í stökustu vandræðum, og tekur það ráð að fara með köttinn heim í Barmahlíð til sín. Sonur hennar Siggu er heldur en ekki kátur þegar mamma hans kemur heim með þennan gula.

Nú líður Hannesi vel. Sigga getur ekki vitað að þetta er Hannes Grásteinn,


týndur kettlingur úr Norðurmýrinni. Hann ber ekkert hálsband. Því hafði alltaf verið stolið af honum.

En auðsætt er, að hann er vanari börnum og hlýju en því að sofa milli öskutunna.

Sigga les.

Sigga les auglýsingar í blöðunum, -- ef einhver skyldi auglýsa eftir gulum ketti.


En nú voru fjórar vikur liðnar frá því að Hannes fór að heiman. Við höfðum gefið upp alla von. Hannes fékk nóg að eta hjá Siggu, og á einni viku varð ann aftur feitur og pattaralegur. Sigga ákvað að setja auglýsingu í blað: -- Gulur köttur í vanskilum í Barmahlíð.

Nóg að éta.


Við hringjum strax. -Halló. -Gulur köttur? Getur hugsast að þetta sé Hannes? Gæti hann hafa þvælst upp í Hlíðar? En nú voru fimm vikur síðan okkar guli köttur hvarf. -Ha? Hjá Bændahöllinni?!!

Við förum samt upp í Barmahlíð, þótt okkur finnist litlar líkur á að þarna sé um Hannes Grástein að ræða.


Þetta er Hannes!

Hannes fundinn! Við trúum varla okkar eigin augum. Hannes malar þegar hann finnur lyktina af okkur, og stingur trýninu sínu í hálsakot. Hann er ekki búinn að gleyma okkur.

Við sendum síðan Siggu og litla stráknum hennar smágjöf fyrir hve góð þau voru við Hannes. -- Sigga er sannur dýravinur.


Surtarbrandur er kátur.

Þegar við komum heim með Hannes, er Surtarbrandur, það hasardýr, ofsa kátur að sjá bróður sinn, og þýtur til móts við hann með alls konar kettlingalátum.


Surtarbrandur er kátur, en Hannes er varkár í fyrstu.

Sá sem þarf að treysta eingöngu á sjálfan sig gegn öllum hættum lífsins, er sífellt á verði. Styggð og varfærni útilegukattarins lýsir sér í fasi hans.


Hannes er varkár. Þegar Hannes finnur lyktina af bróður sínum, man hann eftir öryggi heimilisins og áhyggjulausum kettlingadögunum.


Þeir kúra saman, bræðurnir á ný, ---eftir langan aðskilnað--í gamla barnavagninum í kjallaraganginum.

Bræður kúra saman. *********


Hér lýkur áttundu bók Hannesar sögu Grásteins 8. bók af 20: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum

Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða

1. 2. 3. 4. 5. 6.

http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes

bók: bók: bók: bók; bók: bók:

Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist Hannes Grásteinn og Surtarbrandur Kettlingunum stolið Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli


15. 16. 17. 18. 19. 20.

bók: bók: bók: bók: bók: bók:

Snjótittlingaveiðar Nýi kettlingurinn Vor í lofti Hannes fer í sveit Hvolparnir Dánartilkynning

- fleiri myndasögur og lestraræfingar:

TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið


TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og og

fjölleikahúsið lyktarsjónvarpið græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir

Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon

- fleiri myndasögur og lestraræfingar eftir Guðrúnu Kristínu Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti


- langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, þeirra á meðal verðlaunasögur

Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes!


- verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)

Guðrún Kristín Magnúsdóttir verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Hannesar saga Grásteins, 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum by Geimveran TAK - Issuu