Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman

Page 1

Hannesar saga Grásteins 7. bók HANNES GRÁSTEINN HVERFUR AÐ HEIMAN

Hannesar saga er skrifuð handa ungu lesendunum; við lesum myndir við lesum stuttan texta og við lesum langa sögu


4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á

http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir

7. bók Hannes Grásteinn hverfur að heiman


Hannes og Surtarbrandur eru orðnir fjögurra mánaða. Eftir u.þ.b. einn mánuð munu þeir verða kynþroska. Við ætlum að fara með þá til dýralæknis og láta vana þá. Geltir fresskettir verða rólegir og heimakærir.

Þeir vaxa.


Þegar högnar (þ.e. karldýr kattarins) verða kynþroska, hafa þeir ósegjanlega þörf fyrir að leggjast út -- fara að heiman. Þeir vilja helst vera úti allar nætur, breima og fljúgast á við aðra fressketti.

Fress.


Ef þeir finna út að læða einhvers staðar,

(kvendýr kattarins)

býr

þá láta þeir nafnspjaldið sitt hjá dyrunum hennar.

Læða.


Þið haldið þó ekki að þeir stingi miða inn um bréfalúguna, læðan taki hann svo og lesi ástarbréfið? Þið haldið þó ekki að þetta sé eins og í asnalegum sögum sem fullorðnir búa til um dýr í mannafötum --- gangandi á tveim afturfótum eins og menn? Það er auðvitað bara fullorðinnabull, sem sumir halda að gangi í börn.

Nei.

Ekki svona.


Dýrin hafa sitt eðlislæga táknmál, sem þau skilja. Fresskötturinn pissar einfaldlega utan í dyrakarminn! Og lyktin, maður!! Oh. Það fer nú ekki framhjá neinum að þar hefur verið högni í ástarhug á ferð.

Fress að spræna utan í.


Læðueigandinn þarf svo að þvo allan dyrakarminn rækilega með ediksvatni, til þess að losna við fnykinn. Eitt skal ég segja ykkur: Við menn notum líka lyktarskynið og lyktargjafa þegar við erum í ástarhug! Ekki aðeins heyrnina, tilfinninguna, sjónina og bragðið. Við bara erum ekki meðvituð um það. Trúum því varla.

Um nætur sitja svo fressarnir breimandi fyrir utan húsið hjá læðunni. Fólkið í kring fær engan svefnfrið. Sumir reyna að skvetta vatni á þá.

Þegar fress breimar.


Þegar fressarnir svo loks snúa heim -- þreyttir og úrillir, og bitnir eftir áflog -- hafa þeir ekki minnsta áhuga á að láta krakka vera að fulhnúa með sig. Ef högni er vanaður -- en best er að gera það um fimm mánaða aldur ---

* framleiðir hann engin lyktarsterk „ástarbréf“ * leggst ekki út í leit að breimableyðu * kemur ekki eyrnabitinn heim eftir margra nátta fjarveru * nennir að svæfa litlu eigendurna sína. Auðvitað er ljótt að taka framfyrir hendurnar á náttúrunni, en við ákveðum samt að panta tíma hjá dýralækninum.

Á að vana fress?


En nú skulið þið heyra: Hannes litli stendur við dyrnar og vill komast út. Hann hlýtur að þurfa að gera svolítið (!) fyrir nóttina. Ég ætla að hleypa honum út í snjóinn. Hann verður áreiðanlega fljótur inn aftur í þessum kulda.

Hannes vill út.


Ég bíð í dyrunum. Hannes þefar út í loftið. Þessi myndarlegi fallegi kettlingur - stór eftir aldri - er eitthvað annarlegur í kvöld; hann líkist ekki kettlingi lengur. Nú mjálmar hann, ekki kettlingamjálmi, heldur -- hvað heyri ég?? -Hannes teygir upp álkuna og BREIMAR !

Hannes breimar.


-Hannes, Hannes minn! Komdu inn! Úti er dimmt og kalt, kjáni litli. Hannes! Hannes! Hannes gegnir ekki nafninu sínu. Hann virðist ekki finna fyrir kuldanum. Náttúra hans stjórnar honum. Ég stekk inn að ná mér í stígvél á fæturna.

Ég fer út.


Þegar ég kem út er Hannes allur á bak og burt. Við köllum fram eftir kvöldi. Við leitum næsta dag og daginn þar á eftir. Við spyrjum alla krakka í nágrenninu og biðjum þau að hjálpa okkur. Við auglýsum í blaði, en verðum einskis vísari. Surtarbrandur leitar líka. Hann eigrar um úti og inni. Surtarbrandur saknar bróður síns.

-Hannes !

-Hannes !!!


Ætli hann hafi orðið fyrir bíl? Skyldi einhver hafa tekið hann og borið hann langt burt, svo hann finnur ekki leiðina heim? Eða er hann e.t.v. rekinn áfram af eðlislægri innri þrá? Kemur hann aftur heim af sjálfsdáðum? Hvar er Hannes?

Hannes er víðs fjarri.


Hannes Grásteinn fer lengra og lengra. Hann kemur á staði, sem hann hefur ekki séð fyrr.

Hannes er týndur.

Næturnar eru stjörnubjartar, undarleg lykt í loftinu, köld og æsandi.


Þótt fólkið í húsunum sofi, er Hannes Grásteinn ekki einn á ferð. Allt í einu ........

Hannes sér kött .... stendur hann augliti til auglitis við stóran stóran kött. Hannes finnur greinilega framandi lyktina af honum.


Þótt Hannes sé vanur að fljúgast á við Surtarbrand, er þessi ekki eins árennilegur. Kettlingaáflog eru góð æfing. Ríkur er sá kettlingur sem hefur annan kettling, eða mömmu sína, til að æfa áflog með.

En nú, í fyrsta sinn, finnur Hannes Grásteinn fyrir alvöru lífsins. Hann tekur því jafn rólega og yfirvegað sem öðru. Hann er ekki hræddur, hann langar ekki til að flýja. En það er óskynsamlegt að koma sér í meiri klípu en orðið er. Því forðar Hannes sér af vettvangi.


Lítið er í svanginn að hafa í þessum stóra spennandi heimi.

Hann er svangur. Náttúra hans rekur hann samt áfram í leit að ævintýrum. Hann er lagstur út.


Einhverjir góðir krakkar gefa honum mjólkurlögg og fiskruður. Það er gott að koma inn í hlýjuna.

Hannes fær að sofa hjá þeim í heilan dag. Óstjórnlega er hann svefnþurfi.

Góð börn.


Um kvöldið vaknar Hannes og sníkir meira í svanginn. Mamma krakkanna segir þeim að láta nú kisuna út fyrir nóttina. Þau megi ekki loka hana inni, enda hljóti hún að rata heim.

Hannes úti á ný.


Þetta voru nú bara ágætis krakkar. Hið villta líf tekur við Hannesi á ný: Ævintýri, hættur, stórir ókunnugir kettir, kuldi, öskutunnur, Nú er gott að hafa hlýjan feld og sjálfstraust kattarins.

**********************


Hér endar sjöunda bók Hannesar sögu Grásteins 7. bók af 20:

Hannes Grásteinn hverfur að heiman 1.bók:

Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók:

Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók:

Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók;

Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók:

Kettlingunum stolið 6. bók:

Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók:

Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók:

Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók:

Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók;

Hannes veiðikló


11. bók:

Hefur kötturinn níu líf? 12. bók:

Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók:

Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók:

Milli 15. bók:

Snjótittlingaveiðar 16. bók:

Nýi kettlingurinn 17. bók:

Vor í lofti 18. bók:

Hannes fer í sveit 19. bók:

Hvolparnir 20. bók:

Dánartilkynning Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon og á síðunni

http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes


- fleiri myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta

TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir


Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar

Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti

- langar barna- og unglingasögur:

Halla Japl, jaml og fuður

eftir Guðrúnu Kristínu


- smásögur, unglingasögur: (þeirra á meðal verðlaunasögur)

Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit

-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning

Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns)


Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook