Hannesar saga Grásteins 6. bók ÞAÐ EINA SEM ER KÁTARA EN KÁTUR KETTLINGUR ER: KÁTIR KETTLINGAR Við lesum myndir, við lesum stuttan texta, og við lesum langa sögu Hannesar saga Grásteins sönn saga. 20 bækur
4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning
Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á
http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
6.bók Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er:
kátir kettlingar
Kettir eru hreinlegir og auðvelt að hafa þá í húsum inni. Þeir þurrka að vísu ekki af fótunum á sér áður en þeir hoppa upp í rúm, en þeir þvo sér örugglega rækilega, þótt mamma þeirra sé hætt að sinna uppeldinu.
Þvottur.
Bræðurnir Hannes Grásteinn og Surtarbrandur eru ánægðir með að hafa hvor annan. Þá geta þeir flogist á í fullkomnum kettlingaleik. Ef maður á aðeins einn kettling, þarf maður að vera duglegur að leika við hann. Leikþörfin er nær óþrjótandi.
Þeir leika sér.
En það er ótrúlegt hve kettir geta slakað á -- og látið sér lynda, að smávaxnir eigendur séu að fulhnúast með þá.
Hjalti með Hannes
Hannes og Surtarbrandur eiga pappakassahús, sem er alveg mátulegt fyrir þá. Meira að segja eru leynigöng úr einum kassa í annan.
Kassahús.
Þegar leikurinn nær hámarki, veltur venjulega húsið, samskeytin rifna, og leynigöngin eru ekki lengur leyni neitt. Þá mega krakkarnir eiga við viðgerðirnar. Það er ekki verk fyrir káta kettlinga.
Kassahús í klessu.
Þeir hafa ekki tíma til að eiga við viðgerðir. Þeir eru önnum kafnir við að veiða pappírsvöndul, sem dinglar í bandi. Þessi sígilda bréfmús veitir þrotlaust trimm.
(Endilega leyfið kettlingum stundum að ná henni. Ef henni er alltaf kippt burt, gefast þeir upp.)
Bréfmús.
Auðvitað kemur að því að litlir kettlingar þreytast. Þeir hafa valið sér gamla barnavagninn í kjallaraganginum fyrir einkabæli. Kettlingarnir geta stokkið margfalda hæð sína nær fyrirhafnarlaust. Þarna geta þeir sofið tímunum saman á daginn eftir þreytandi leiki.
Þeir sofa hér.
Þegar Hannes og Surtarbrandur vakna, er ekki verið að fara sér að neinu óðslega: Staðið hægt á fætur, teygt úr hverjum vöðva, og slakað á á eftir. Þið ættuð að prófa að teygja ykkur svona innilega, þegar þið vaknið. Það er örugglega snjallt að slaka svona vel á, áður en hlaupið er af stað.
Þeir vakna.
Þeir bræður þykjast nú vera orðnir of stórir kettir til að fara í dallinn sinn. Þeir vilja frekar fara út í garð, grafa holu, gera svolítið, moka svo vandlega yfir, þar til engin lykt finnst. Þetta kemur engum við.
Pissað úti.
Nú koma þeir auga á fuglana sem fljúga tré úr tré, garð úr garði. Surtarbrandur mænir á eftir þeim með áfergju. Ævintýraþráin lætur kettlingana ekki í friði.
.
Í veiðihug
Surtarbrandur stekkur upp í trén. Fuglarnir hafa vit á að leika sér ekki við ketti, og fljúga yfir í annan húsagarð. Og haldið þið að kettlingarnir hafi þá bara hætt að hugsa um það? Ó, nei. Þeir stökkva á eftir þeim. Eltingaleikurinn berst garð úr garði fyrr en varir. Nú halda þeim engin bönd. Í þeirra hugum er tilveran einn allsherjar meinlaus og hættulaus galsi.
Burt - á eftir fuglunum.
En við vitum betur. Við kaupum ólar, sérstakar kattaólar, og merkjum kettlingana kirfilega með heimilisfangi og símanúmeri. Ef þeir skyldu fara að þvælast langt brott, yrðu áreiðanlega einhverjir góðir krakkar til að koma þeim heim. Og ef þeir stykkju fyrir bíl og dæju, gæti bílstjórinn a.m.k. látið okkur vita um slysið í stað þess að fleygja hræinu bara í næstu öskutunnu, og við værum þá að kalla og leita og auglýsa í marga marga óvissudaga.
Ól á Hannes.
Fyrst í stað þykir kettlingunum óþægilegt að hafa ólar um hálsinn. Þeir reyna árangurslaust að klóra þær af sér. Von bráðar hætta þeir að veita ólunum eftirtekt. Ómerktir fá þeir enda ekki að fara út. Brátt verður það gaman að fá ól, því þá vita þeir að það er verið að hleypa þeim út í frelsið.
Surtarbrandur klórar sér.
Ekki líður á löngu þar til kettlingarnir koma ólalausir inn. Einhverjir krakkar hafa stolið af þeim litlu laglegu ólunum. Við kaupum nýjar ólar í von um að þær verði látnar í friði. En allt fer á sömu leið: Þeir koma ólalausir inn á ný.
Ólar hverfa.
Nú er að koma vetur. Þá er gaman að fara á snjókornaveiðar í garðinum.
Gaman!
Snjór!
Ef hann tekur að hvessa, er alltaf hægt að smeygja sér inn um kjallaragluggann .... .... fá sér mjólk og fisk inni í hlýjunni .... ..... og þvo sér hátt og lágt, þegar snjórinn byrjar að bráðna á feldinum. Svo er alltaf hægt að hlýja sér á tánum á einhverri dúnsænginni.
Inn að éta.
Heimakærir kettlingar kúra hjá litlu eigendunum sínum á hverju kvöldi. Surtarbrandur malar mjög hátt, - eins og flestir kettir gera jú en Hannes malar svo lágt að varla heyrist. Þeir mala sig - og börnin - í svefn. Þetta hljóð er svo róandi.
Kúra.
Mala. *********
Hér endar sjötta bók Hannesar sögu Grásteins 6. bók af 20: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina, sem er kátara en kátur kettlingur, er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða
10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning
Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon og á síðunni http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes - myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta
TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið
TAK TAK TAK TAK TAK TAK
og og og og og og
græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir
Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon
- fleiri myndasögur og lestraræfingar eftir Guðrúnu Kristínu Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti
- langar barna- og unglingasögur:
Halla Japl, jaml og fuður
- smásögur, unglingasögur Guðrúnar, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit
-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning
Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010)
Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)
Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org
Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga