Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 5. bók: Kettlingunum stolið

Page 1

Hannesar saga Grásteins 5. bók

KETTLINGUNUM STOLIÐ Við lesum myndir, við lesum stuttan texta, og við lesum langa sögu


4.útgáfa

Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á

http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir

5.bók af 20: Kettlingunum stolið

Hvar eru þeir?


Hannes Grásteinn og Surtarbrandur njóta lífsins í kjallaranum hjá okkur. Þeir hafa allt sem kettlingum þykir best: Fisk, mjólk, mjúk rúm og áflog. Hvað er kátara en kátur kettlingur? Svar: Tveir kátir kettlingar.

Gaman.


Þegar krakkarnir eru heima til að gæta kettlinganna, fá Hannes og Surtarbrandur að fara út um kjallaragluggann út í garð. Þar er nú frumskógur í lagi. Surtarbrandur stekkur hvað eftir annað hátt upp í tré; oft svo hátt að hann þorir ekki niður aftur, litli villingurinn. Surtarbrandur er hátt uppi í tré

Stigi Við verðum að ná í stiga og sækja Surtarbrand.


Þegar eigendurnir eru í skólanum, eru kettlingarnir lokaðir inni. Við erum hrædd um að þeir týnist. Aðeins smá rifa er á kjallaraglugganum.

Þeir bíða inni


Þegar börnin svo koma heim, kalla þau strax á kettlingana, til þess að leyfa þeim að viðra sig í garðinum.

En einn daginn koma kettlingarnir ekki þegar kallað er: -Hannes, kis-kis! -Surtarbrandur, kis-kis! Börnin leita í gluggunum, í rúmunum, í sagdallinum, á öllum hugsanlegum stöðum. Hvergi er þá að finna.


-Ha? Þau leita jafnvel úti í garði, þótt óhugsandi sé að ........

Þau fara út í garð og kalla:


-Kis-kis!

-Hvar eru þeir?

-Eruð þið að leita kettlinganna? kallar Bergljót út um gluggann á miðhæðinni.


-Ég sá tvær stelpur vera hér í garðinum áðan. Þær voru að skoða kettlingana

-Ég sá tvær stelpur. Það eru svo oft krakkar að horfa á kettlingana inn um gluggann. Ég heyrði stelpurnar rjála eitthvað við gluggann. Ég hef séð þessar stelpur í skólanum.


Að líkindum eiga þær heima uppi á Rauðarárstíg, og ég held að önnur þeirra heiti Rósa.

Getur verið að ....???

Þar eð kettlingana er hvergi að finna, fer ég að leita Rósu á Rauðarárstíg og vinkonu hennar,


-- ef hugsast gæti að þær vissu eitthvað um hvarfið.

Fyrst svo heppilega vildi til að Bergljót varð vör við einhverjar stelpur í garðinum heima og bar kennsl á aðra þeirra, ætla ég að reyna að hafa upp á þeim.

-Býr Rósa hér?


Hjalti, Kristín, Helgi og Magnús ætla að halda áfram að leita í nærliggjandi görðum. Krakkar úr næstu húsum hjálpa til við leitina. Ég geng hús úr húsi á Rauðarárstíg, og spyr hvort nokkur Rósa búi þar. Sumir bregðast illa við: Skella svo í lás.

-Nei.

-Engin Rósa hér.


Aðrir eru hjálplegir: -Það býr telpa hér á efstu hæð, sem einmitt er á þessum aldri. En hún heitir að vísu ekki Rósa heldur Maja.

-Maja býr uppi.


Á efstu hæð fæ ég upplýst, að Maja og Rósa eru vinkonur. -Þær eru einhvers staðar úti. Enginn veit neitt um neina kettlinga.

-Rósa og Maja eru úti.


Niðri í kjallara er kona að þvo. -Þér hafið víst ekki séð hér tvær telpur með kettlinga? spyr ég. -O, jú. Hún Maja litla á loftinu og vinstúlka hennar voru með litla hnoðra hér í morgun. Þær fóru eitthvað út með þá.

-Já. Með kisur.


Ég gleymi nærri því að þakka konunni fyrir. Ég þýt út kjallaramegin. Ég geng um göturnar leitandi. Ég kalla eins hátt og ég get. -Rósa og Maja!!! -Rósa og Maja!!! -Rósa og Maja!!! Tvær telpur líta við. Ég spyr þær: -Hafið þið nokkuð séð tvo kettlinga sem eru týndir frá Skarphéðinsgötunni? Rósa og Maja segja nei.


-Nei, segja þær. -Ó stelpur mínar! Ég er búin að leita um allt. Kettlingarnir eru svo litlir að þeir rata ekki heim. Litlu krakkarnir sem eiga þá eru grátandi heima. Þau halda að litlu kisurnar þeirra hafi orðið fyrir bíl og dáið. Getið þið nokkuð hjálpað mér að leita? Loks fékk önnur þeirra málið:


-Jú, annars. Við sáum kettlinga áðan. Stelpa sem á heima þar gaf þeim mjólk. -Ó, stelpur mínar, sýnið mér hvar.

Ég elti þær yfir götu og inn í einhvern garð. Þar er enga kettlinga að sjá.


Hvar eru þeir? Telpurnar setja upp kæruleysissvip. -Hvar haldið þið að þeir geti þá verið? spyr ég. -Þið vitið að svona litlir kettlingar verða fyrir bíl ef þeir hlaupa út á götu.


Ef enginn gefur þeim neitt í svanginn deyja þeir úr hungri. Þeir eru allt of litlir til að veiða sér til matar. Í nótt verður þeim ofsalega kalt. Þeir eru vanir að sofa í hlýju rúmi. (Ég held áfram, því ég sé að þær eru að byrja að skilja hvað þær hafa gert:) -Og, eins og þið vitið, geta dýrin ekki ratað aftur heim, ef einhver hefur borið þau hingað. Dýrin þurfa að þefa leiðina sína, til þess að rata. Litlir kettlingar geta ekki lesið götunöfnin né heldur munað það sem þeir sjá á leiðinni. Nú verða þær áhyggjufullar. Ég bið þær að hjálpa mér að leita.

Rósa og Maja.


Og loksins loksins finnum við kettlingana þar sem þeir kúra í hnipri í kjallaratröppum einhvers staðar á Mánagötunni. Þið getið varla ímyndað ykkur hve fegin ég verð. Heilir á húfi, báðir tveir!

Við finnum þá.


Ég spyr stelpurnar hvort þær langi til að halda á þeim heim fyrir mig. E.t.v. voru þær börn sem langar til að hafa dýr, en geta hvergi fengið að vera með það. Þær svara engu. Ég segi Rósu og Maju að þær megi koma og skoða kettlingana, hvenær sem þær vilji. Vonandi hafa þær séð, hverjir óvitar þær voru.

Rósa og Maja.


Mikil er kætin þegar ég kem heim með svanga þreytta bræður.

Þeir éta fisk ***********************


Hér lýkur fimmtu bók Hannesar sögu Grásteins, 5. bók af 20:

1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða


10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning


(þið munið að saga Hannesar er um sanna viðburði á kattarævi) Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða

http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes - myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið


TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK

og og og og og og og

lyktarsjónvarpið græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir

Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar Guðrún Kristín: Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti


- langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður

- smásögur, unglingasögur Guðrúnar, Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996)


Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD)

Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Hannesar saga Grásteins, 20 skemmtilegar bækur, yndisleg, sönn, viðburðarík saga


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook