Hannesar saga Grásteins 4. bók HANNES GRÁSTEINN OG SURTARBRANDUR við lesum myndir, við lesum stuttan texta, og við lesum langa sögu Hannesar saga Grásteins er sönn saga. 4.útgáfa Freyjukettir, Norræn menning Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
Elra Gúlla leiddist eftir að Hafri bróðir hans varð fyrir bíl og dó. Elri leitaði hans úti og inni í marga daga.
Elri aleinn.
Á hverju kvöldi þurfti hann svo að svæfa alla eigendurna sína aleinn, og það er ekki lítið starf. -Ég má hafa hann fyrst núna. Þú fékkst að hafa hann fyrstur í gærkvöldi. -Það var bara af því að ég var á undan að bursta í mér tennurnar. Þú átt eftir að bursta í þér tennurnar, góða.
-Ég má.
Branda Bröndudóttir á Nesinu, -- mamma Hafra og Elra Gúlla -var búin að gjóta á ný.
Branda gaut. Hún gaut í agúst.
Elri hafði eignast fjölda systkina, sem hann hafði ekki hugmynd um að væru til. Þurfti honum þá að leiðast lengur? Það varð úr að við fórum til Dóru og fengum aftur tvo kettlinga undan Bröndu, ----- þegar þeir voru orðnir nógu stórir til að fara frá mömmu sinni.
Fáum tvo.
Annar kettlingurinn var svartbröndóttur, gljáandi, með leiftursnögg augu eins og Hafri bróðir hans hafði haft. Hinn: gulur, feitur og úfinn bómullarhnoðri; auk þess ákaflega syfjaður. Á heimleiðinni vildu allir krakkarnir fá að halda á kassanum með nýju kettlingunum í. Svartbröndótti kettlingurinn horfði skelfdur upp úr kassanum á þessa hávaðasömu tröllauknu mannaunga.
Nöfn á þá. -Við megum ekki gera dýrin hrædd.
Við skulum frekar klóra þeim ósköp varlega á bakvið eyrun, og nota tímann á heimleiðinni til að finna góð nöfn handa þeim. Ákveðið var að svartbröndóttur skyldi nefndur Surtarbrandur. Surtarbrandur var ekki lengur hræddur. Hann gægðist lengra og lengra upp úr kassanum, og reyndi síðan að príla upp úr. Það ætlar greinilega að verða sama fjörið og fyrirferðin í Surtarbrandi og var í Hafra sáluga.
Forvitinn.
En gulur hnöttóttur hnoðri hefir litlar áhyggjur af því sem fram fer. Hann sefur sem fastast. Rifrildið í nýju eigendunum og leikurinn í Surtarbrandi raska ekki ró hans. Þess vegna er hann nefndur Hannes.
Hannes sefur.
Það er í höfuðið á Hannesi, skapgóða stráknum, sem er vinur Magnúsar. Sá Hannes nennir aldrei að standa í rifrildi eða áflogum. Hannes Grásteinn. -Hvers vegna Grásteinn? -Bara.
Þegar heim kemur er Elri, stóri bróðir, lítt feginn nýja félagsskapnum.
Elri er fúll. Lítt tjóir að segja honum, að þetta séu bræður hans.
Nú fái hann félaga í stað Hafra sáluga. Nú þurfi hann ekki aleinn að svæfa alla krakkana. Elri Gúlli leggur kollhúfur, þegar hann sér þessa litlu, ljótu hnoðra staulast að mjólkurskálinni --- mjólkurskálinni hans! -Puh. Það er fýla af þeim! Elri gengur út með fyrirlitningarsvip.
Elri fer
Þeir lepja mjólk. Við reynum að sleikja úr Elra. Hann þykist nú vera orðinn nógu stór köttur til að vera úti á nóttinni. Hvernig sem við reynum að vera góð við hann, kemur hann æ sjaldnar heim. Hefur Elri fundið sér nýjan samastað? Það vitum við ekki.
Við reynum að spyrjast fyrir um hvar hann haldi sig. Kettir eru allt of sjálfstæðir til þess að spyrja aðra um, hvað þeim henti best. Óháður velur kötturinn sér heimili á þeim stað er honum líkar. Elri Gúlli yfirgefur okkur. Honum mislíkar, og flytur að heiman. Við vitum ekki hvert.
Elri fer.
Hannes Grรกsteinn, stรณri guli bรณmullarhnoรฐrinn, vaknar og teygir sig letilega.
Hannes. Hannes teygir sig.
Surtarbrandur stekkur.
Surtarbrandur hendist upp og fær sér trimmsprett á þvottahússgólfinu -- frá þvottabalanum yfir klemmuboxið og ....
.... sem Hannes Grásteinn ætlar að fara að fá sér smá mjólkurlögg að lepja, liggur leið spretthlauparans einmitt þar hjá, --- með smáskvettu
Hannes dettur á kjammann ofan í mjólkurskálina.
Hannes dettur. Þetta gerir svosem ekki mikið til. Þörf er á þvotti hvort eð er. Surtur er á bak og burt. Hann hjálpar ekki hið minnsta við hreingerninguna.
Þvottur.
En þegar Hannes er til í tuskið, er eins gott fyrir Surtarbrand að hlaupa hratt.
Hannes til í hasar.
Hannes er svo miklu stærri og þyngri, að Surtarbrandur lendir alltaf undir í áflogunum. Svo kemur fiskbitinn:
afgangur af ýsu með tómatsósu! Þá er tilvalið að byrja að kenna kettlingunum að koma þegar kallað er á þá: -Hannes, kis-kis! -Surtarbrandur, kis-kis! Hannes og Surtarbrandur fá sér ríflega í svanginn. Einkum Hannes feitabolla. Nóg er af góðum bitum í ruðunum. Að vísu virðast börnin nota óþarflega mikla tómatsósu.
Þeir éta.
Það getur verið þreytandi að hamast í kettlingaleikjum alla daga, og það er örugglega mjög hollt að hvíla sig eftir matinn.
Það virðast kettir vita.
Á kvöldin sofna þreyttir kettlingar. Gott er að láta sér líða vel í hlýju og öryggi.
Þeir fara að sofa. *********
Hér endar fjórða bók Hannesar sögu Grásteins 4. bók af 20:
Hannes Grásteinn og Surtarbrandur
1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur
5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar
16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning
Útgefandi:
Norræn menning
Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon eða
http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
- fleiri myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta
TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn
TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon
- fleiri myndasögur og lestraræfingar
eftir Guðrúnu Kristínu
Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur: Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, (meðal þeirra verðlaunasögur)
Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir
Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikritið
-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning
Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org