Skip to main content

Hannesar saga Grásteins, 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist

Page 1

Hannesar saga Grásteins 3. bók (af 20) HAFRI FER SÉR AÐ VOÐA ELRA GÚLLA LEIÐIST

Freyjukettir, Norræn menning

við lesum myndir, við lesum stuttan texta, og við lesum langa sögu Hannesar saga Grásteins er sönn saga skrifuð handa ungu lesendunum. Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir


3.bók Hafri fer sér að voða Elra Gúlla leiðist

skammstafanir: þeas. það er að segja etv. ef til vill þ.e. það er t.d. til dæmis amk. að minnsta kosti u.þ.b. um það bil ath. athugið


Sunnudagsmorgun nokkurn í blíðskaparveðri hafði Hafra Bröndusyni tekist að vekja Elra bróður sinn. Látunum í Hafra voru engin takmörk sett. Ég var viss um að hann endaði á að vekja alla krakkana.

Hafri vill út.


Svo mjálmaði Hafri við gluggann eins hátt og hann gat. Sólin var búin að vekja flugurnar í garðinum. Kettlingarnir, sem voru orðnir þriggja mánaða, þurftu töluvert athafnasvæði. Fjörið kraumaði í hverjum vöðva.

Ég hleypti þeim út um gluggann út í garð. Ég átti eftir að sjá eftir því.


Sól úti

Úti í frelsinu upphófst leikur ofsalegur.

Hafra þótti hin besta skemmtun að klifra hátt hátt upp í trén í nokkrum stökkum


-- svo hátt að hann komst varla niður aftur af sjálfsdáðum!

Hátt uppi í tré Lífsþrótturinn var nærri takmarkalaus.

Áður en varði keyrði úr hófi.


Í æðisgengnum eltingaleik stökk Hafri upp á steingarðinn. Elri á eftir.

EKKI !!!


Hafri hljóp beint út á götu. Hann vissi ekki að þar bíða hætturnar. Eltingaleikur á ekki heima úti á umferðargötu.

Bíll kom þjótandi --- hemlaði --- en um seinan.


Slys.

Hafri, þessi fjörkálfur, lá nú skyndilega á götunni. Þetta unga hrausta dýr, sem fyrir stundu hafði verið fullt af þrótti og gáska, lá nú og kvaldist á hörðu köldu malbikinu.


Það blæddi úr honum.

Hafri kvaldist. Bílstjóranum þótti þetta leiðinlegt, en hann gat ekkert gert úr því sem komið var. Ég tók Hafra inn. Hann mjálmaði hátt og átakanlega.


Elri gat ekki skilið hvað hafði gerst --- hví leikurinn fékk svo snöggan endi. Hann hlustaði hræddur á sársaukavæl bróður síns.

Elri hræddur.


Hafri þjáðist meira og meira er leið á daginn.

Hafri að deyja. Okkur tókst að ná tali af dýralækni.


Hann sagði að lítið væri hægt að gera fyrir dýrið, þar sem líklega væri um innvortis blæðingar að ræða. Ljóst var að innyflin höfðu skaddast. Við gátum ekki horft upp á Hafra kveljast til bana. Um kvöldið fengum við lyf til að svæfa hann. Það var erfitt.


-Mamma, er kisan mín núna dáin, af því að hún hljóp út á götu og fyrir bíl? spurði Hjalti.

Það kom bíll.


-Mamma, geta kisur aldrei lært umferðarreglur? spurði Kristín.

Að gæta sín.


-Mamma, ef þú hefðir ekki hleypt þeim út, væri Hafri þá ennþá lifandi? spurði Helgi.

Ef ekki.....


Magnús, stóri bróðir, dysjaði Hafra í garðinum milli trjánna, þar sem hann hafði fyrr leikið sér að flugum og grasstráum -- sína sumarlöngu ævi

Dys. ********************


Hér lýkur þriðju bók Hannesar sögu Grásteins 3. bók af 20: Hafri fer sér að voða Elra Gúlla leiðist

1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið


6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli


15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir 20. bók: Dánartilkynning

Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes

Útgefandi:

Norræn menning

- fleiri myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta http://www.geimveranTak.wordpress.com


TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir


- fleiri myndasögur og lestraræfingar

Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur:

Halla Japl, jaml og fuður - smásögur:

Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn

eftir Guðrúnu Kristínu


Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit

-Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning

Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook