Hannesar saga Grásteins 2. bók 4. útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning
BRANDA BRÖNDUDÓTTIR OG SYNIR HENNAR: HAFRI OG ELRI GÚLLI Hannesar saga er skrifuð handa ungu lesendunum; við lesum myndir, við lesum stuttan texta, og við lesum langa sögu Hannesar saga Grásteins er sönn saga. Hannesar saga Grásteins 20 bækur sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
2. bók
Branda Bröndudóttir
og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli Þegar kettlingarnir hennar Bröndu skottlausu stálpuðust, urðu þeir æði fyrirferðarmiklir í bílskúrnum. Oft komu líka krakkar í heimsókn til þess að skoða kettlingana. Margir vildu fá að eiga kettling, en ekki mega allir hafa kettling heima hjá sér. Dóra ákvað að gefa þrjá af kettlingunum.
En fyrst urðu börnin að fá leyfi hjá pabba og mömmu. Fjórða kettlinginn, sem var bröndótt læða -alveg eins og mamma hennar nema auðvitað með skott-ákvað Dóra að eiga sjálf.
Þeir leika sér.
Branda litla Bröndudóttir stækkaði brátt. Auðvitað komu allir högnarnir á Nesinu í heimsókn.
Branda.
Enda leið ekki á löngu þar til Branda yngri gaut. Þá þurfti Dóra aftur að fara að gefa kettlinga. Við fengum þessa tvo undan Bröndu, þegar þeir voru orðnir nógu stórir til að lepja sjálfir.
Hafri og Elri. Annar - bröndóttur alveg eins og mamma hans og amma - var nefndur Hafri. Hinn - gulbröndóttur - kallaðist Elri Gúlli. (Eru það nú nöfn, sem krakkar geta fundið upp!)
Svo þarf auðvitað að kenna kettlingum að fara í dallinn sinn.
Við fengum sag á smíðaverkstæði. Það lyktar minna en sandurinn.
Að pissa.
Þegar Hafri og Elri Gúlli stálpuðust, fengu þeir að fara út um kjallaragluggann út í garð. Það þótti okkur mjög gott, því litlum kattaeigendum þykir ekki gaman að þrífa pissudall.
Úti. Hafri og Elri nutu þess að tuskast í grasinu. Allt í einu stökk Hafri á harðaspretti inn um gluggann. Elra brá. Hvað hafði Hafri séð? Elra fannst vissara að hlaupa líka inn.
E.t.v. var komin í garðinn óvættur grimm að hremma þá. Hafri - sem var driffjöðrin í öllum leikjunum hlaut að hafa séð eitthvað stórhættulegt.
Inn.
Hafri stökk alla leið fram í þvottahús -í dallinn sinn.
Hann þurfti aðeins að gera svolítið.
Hafri pissar inni.
Svo gat hann farið út aftur að leika sér. Fjörið í Hafra var óþrjótandi. Stundum ofbauð Elra Gúlla gersamlega hamagangurinn í bróður sínum.
Elri vildi nú fá frið til að sofa svona einstöku sinnum.
Elri Gúlli.
Fluga. En það væri synd að segja að Elri væri ekki nytsamt húsdýr. Hann var stöðugt á flugnaveiðum. Enda var glugginn uppáhaldsstaðurinn, þegar litlir kettlingar fengu ekki að vera úti.
Kvöld eitt kom stór fressköttur í garðinn. Hann gekk um á milli trjánna eins og ljón í skógi. Hafri skaut upp kryppu og hvæsti. (Honum var alveg óhætt, því kettlingarnir voru inni en ófreskjan úti --- og glugginn nærri því lokaður.)
Fress kom
og fór burt.
Sá stóri lífsreyndi lét sér fátt um finnast slík kettlingalæti. Hann gekk burt jafn rólegur og yfirvegaður og hann kom.
En í næsta sinn lét hann sér ekki nægja að ganga um í garðinum. Við vorum ekki heima. Hann bauð sjálfum sér inn, enda eldhússglugginn ekki lokaður. Hann tróð sér inn um gluggann, át allan fiskinn frá kettlingunum og fékk sér dúr í einu rúminu.
Þar svaf hann vært, þegar við komum heim.
Hann kom inn.
En kettlingarnir voru hvergi sjáanlegir. Við leituðum og kölluðum. Hvar gátu tveir bræður bröndóttir verið? Gat verið að þeir hefðu komist út um eldhússgluggann
Nei. Þeir gátu ekki hoppað upp í gluggann, nema þegar borðið var undir glugganum. Við tókum borðið alltaf frá, þegar við fórum að heiman.
Hvar eru Hafri og Elri?
Svo kom í ljós, að hetjurnar kúrðu í hnipri inni í uppvafinni gólfábreiðu, --- og þorðu ekki að láta á sér kræla fyrr en sá stóri svarti hafði verið fjarlægður.
Hafri var ekki mjög borubrattur í þetta skiptið.
Þarna.
Um kvöldið sofnuðu börn og dýr áhyggjulaus. Úti var björt sumarnóttin. Hver dagur beið eftir óþrjótandi leikjum - sumarleikjum barna og kettlinga.
Sofandi. ****************************
Hér endar önnur bók Hannesar sögu Grásteins 2. bók af 20: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli
1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur 5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum
9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf? 12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir
20. bók: Dánartilkynning
Hvar fást bækurnar um Hannes? http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
eða Hér á Amazon
- fleiri myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta
http://www.geimveranTak.wordpress.com TAK og nornin TAK og Freki TAK og diskurinn TAK og brúin TAK og bíllinn TAK og borðtuskan TAK og fiskarnir Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin
TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK
og og og og og og og og og og og og og
martröðin landbúnaðurinn Lalli Marsbúi allraveðrapeysan páskaeggið fjölleikahúsið lyktarsjónvarpið græna ræktin jarðeplaupptökuvélin tilraunalímið lyftingageimveran mikla vinur fílsins náttúruvænu einnotapokarnir
- fleiri myndasögur og lestraræfingar
Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré
eftir Guðrúnu Kristínu
Fluga Hagbarður og Hvutti - langar barna- og unglingasögur:
Halla Japl, jaml og fuður
- smásögur, unglingasögur Guðrúnar, m.a. verðlaunastögur Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið 1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes!
- verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org