Hannesar saga Grásteins 1. bók af 20
BRANDA SKOTTLAUSA, AMMA HANNESAR GRÁSTEINS
Hannesar saga Grásteins 20 bækur -- sönn saga, skáð á árunum 1970-1990
Viรฐ lesum myndir viรฐ lesum stuttan texta viรฐ lesum langan texta
4.útgáfa
Freyjukettir, Norræn menning freyjukettir@mmedia.is
Hannesar saga, 20 bækur, sagan öll er á http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
myndir og texti: Guðrún Kristín Magnúsdóttir
1. bók
Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins
Bröndótt, lítil læða var orðin að villiketti á Arnarnesinu. Hún hafði augljóslega einhvern tíma verið heimilisköttur, strokin og gæf. En nú var hún villt.
Enginn vissi hvar hún svaf. Hún var alltaf svöng. Stundum kom hún til Dóru og mjálmaði fyrir utan dyrnar. Dóra gaf henni oft fiskruður. Dóra mátti klappa henni.
Kisa (læða).
En Branda var hrædd ef krakkar eltu hana. Þá hljóp hún og faldi sig. Branda var ósköp hvekkt, lítið dýr. Eflaust hefur hún meitt sig ofsalega, þegar hún missti skottið sitt.
Hún var hrædd.
Svo kom vetur. Branda kom oft að sníkja bita hjá Dóru, því Branda átti hvergi heima. Og það sem meira var: Branda var augljóslega orðin kettlingafull.
Bröndu var kalt. Svo liðu nokkrir dagar án þess að Branda kæmi.
Svo kom kisa aftur. Loks kom Branda svo, rytjuleg og vansæl, augljóslega búin að gjóta. En hvar voru þá kettlingarnir hennar? Dóra gaf Bröndu fisk og volga mjólk,
og ákvað að elta Bröndu litlu síðan út í frostið. Branda fór niður í fjöru. Þar smeygði þessi litla læða sér inn undir timburstafla. Þá heyrðist þar inni mikið tíst og kettlingamjálm. Þarna hafði hún gotið og falið alla kettlingana sína. Dóra rétti aðra höndina varlega inn á eftir Bröndu skottlausu.
Kisa fór inn.
Branda reyndi ekki að banna henni það. Dóra var í vanda stödd. Sennilega frysu kettlingarnir í hel þarna. En ef þeir lifðu yrðu þeir allir að villiköttum. Hvað átti hún til bragðs að taka? Dóra tók einn blindan tístandi kettlinginn.
-Kis-kis.
Hún gekk á stað heimleiðis með hann í barminum, og kallaði á Bröndu skottlausu: -Kis-kis. Branda elti Dóru.
Rúm handa kisu. Dóra hagræddi pokadruslum í stórum kassa á bílskúrsgólfinu. Kettlingurinn hafði sofnað hjá Dóru á leiðinni, en vaknaði þegar hann var lagður aleinn í kassann.
Kettlingurinn mjálmaði auðvitað ámátlega og reyndi að brölta um í leit að hlýju. Nú var spennandi að vita hvað Branda gerði. Og hvað haldið þið? Branda gekk út úr bílskúrnum, án þess að taka tístandi ungann sinn. Dóra settist niður og beið. Dóra róaði kettlinginn.
Eftir nokkra stund birtist Branda greyið aftur. Hún hélt á öðrum kettlingi -- hangandi á hnakkadrambinu.
Branda kom. Branda leit varfærnislega í kringum sig. Hún steig aðeins eitt skref í einu, hlustaði, þefaði, varkár, eins og sá er, sem þekkir hættur lífsins. Eins og sá einn sem veit hvað það er að eiga enga vini, eiga hvergi heima. Branda stökk upp í kassann, lagði kettlinginn hjá hinum, fór síðan og sótti þá tvo sem eftir voru, - annan í einu.
Svo lagðist hún hjá þeim. Þeir urðu fegnir að fá að sjúga.
Branda malaði. Branda skottlausa var ekki lengur villiköttur. Hún sofnaði hjá kettlingunum sínum - malandi. **************************
Hér lýkur fyrstu bók Hannesar sögu Grásteins
1. bók af 20: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins
Hvar fást bækurnar um Hannes? Hér á Amazon Sjá einnig http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
Hannesar saga Grásteins (20 bækur), eftir Guðrúnu Kristínu
1.bók: Branda skottlausa, amma Hannesar Grásteins 2.bók: Branda Bröndudóttir og synir hennar: Hafri og Elri Gúlli 3. bók: Hafri fer sér að voða, Elra Gúlla leiðist 4. bók; Hannes Grásteinn og Surtarbrandur
5. bók: Kettlingunum stolið 6. bók: Það eina sem er kátara en kátur kettlingur er: kátir kettlingar 7. bók: Hannes Grásteinn hverfur að heiman 8. bók: Hannes Grásteinn villiköttur á skrifstofu í vesturbænum 9. bók: Surtarbrandur fer sér að voða 10. bók; Hannes veiðikló 11. bók: Hefur kötturinn níu líf?
12. bók: Hannes flytur í nýtt hverfi 13. bók: Fleiri viðburðir: börn hvekkja Hannes; Hannes hvekkir stara 14. bók: Milli 15. bók: Snjótittlingaveiðar 16. bók: Nýi kettlingurinn 17. bók: Vor í lofti 18. bók: Hannes fer í sveit 19. bók: Hvolparnir
20. bók: Dánartilkynning (þið munið að Hannesar saga er um sanna viðburði á kattarævi)
Hvar fást bækurnar um Hannes? http://www.geimveranTak.wordpress.com/Hannes
eða Hér á Amazon
- fleiri myndasögur og lestraræfingar: TAK-sögurnar -geimveran TAK- 30 bækur, eftir Hjalta http://www.geimveranTak.wordpress.com
TAK TAK TAK TAK TAK TAK TAK
og og og og og og og
nornin Freki diskurinn brúin bíllinn borðtuskan fiskarnir
Glámur auli eftir Bjarna Þór TAK og flugvélin TAK og Auðtrúa TAK og fjarskagaman fjarskalítill TAK og draugurinn TAK og innbrotageimveran TAK og slökkvibíllinn TAK og erfiði maturinn TAK og flugeldarnir TAK og skemmtitækin TAK og martröðin TAK og landbúnaðurinn TAK og Lalli Marsbúi TAK og allraveðrapeysan TAK og páskaeggið TAK og fjölleikahúsið TAK og lyktarsjónvarpið TAK og græna ræktin TAK og jarðeplaupptökuvélin TAK og tilraunalímið TAK og lyftingageimveran mikla TAK og vinur fílsins TAK og náttúruvænu einnotapokarnir
Hvar fást bækurnar um Tak? http://www.geimveranTak.wordpress.com eða Hér á Amazon - fleiri myndasögur og lestraræfingar eftir Guðrúnu Kristínu
Apakríli, algjör dúlla!! Hvar voru hrossin í hríðinni? Hnallur og Spói Hrekkjusvín og ljósastaurar Palli og englabjallan Tíkin Tóa og grey litli Krúsi Sigga og hafragrauturinn Mummi Hver er hann þessi Jakob? Draumahúsið Tóta og þau Hrif Jónki fór í réttirnar.... Bína brúða Búi skreytir jólatré Fluga Hagbarður og Hvutti
- langar barna- og unglingasögur:
Halla Japl, jaml og fuður - smásögur, unglingasögur Guðrúnar, m.a.verðlaunasögur
Saga Svaðilfara IN MEMORIAM Sál bróður, steinbítsbróður Tröllabarn Hreggnótt Í mjúku myrkri búa draumarnir Dívan skáldsins Vaknaðu, Lóa! Vaknaðu! Ég, hið silfraða sjal Þetta er mitt hús Melana, drottning frumskógarins Au-pair Dagdraumar og sorgarband Leyniþræðir Huginn Jöruson, hornungur Drottinn blessi heimilið
1000 stjörnur / Bónda minn hálfan -Fylgir þessu hiti, eru verkir með þessu, mamma? Strætó í hringi Blisters and boiled ice, no, boiled eyes! - verðlaunaleikrit -Ég er hættur! Farinn! Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti! - fræðsluefni, norræn menning
Óðsmál in fornu (2009) Valhallar Óðsmál in gullnu (2010) Óðsmál (1996) Skírnismál, helgileikar (handrit handa börnum) Rakni og Þögn - KLUKK (leikir barna, efnisyfirlit seðlasafns) Óðsmál in fáðu (streymi VHS DVD) Guðrún Kristín Magnúsdóttir, verðlaunahöfundur Allar sögurnar á: http://www.geimveranTak.wordpress.com Sjá einnig Óðsmál, http://www.odsmal.org