Skip to main content

Meistaraverkið - sýnishorn

Page 1

FORSPIL Tileinkað minningu Andrei Tarkovsky Það er árið 1938. Haust. Og systir mín Elísabet er fimm ára gömul. Enn eru tíu ár þar til ég fæðist. Systir mín er að leika sér þegar móðir hennar kallar á hana og biður hana um að fara í sendiferð. Það sem hún á að kaupa er skrifað á miða. Á meðan búðarmaðurinn er að tína til það sem stendur á miðanum sér hún tuttugu og fimm aura súkkulaði bak við glerið í afgreiðsluborðinu. Hún hættir samt sem áður ekki á að kaupa án þess að biðja um leyfi. Hún fer heim með bréfpokann og fær móður sinni og biður um að fá að fara og kaupa súkkulaðið. En móðir hennar neitar. Hún fer aftur út að leika en getur ekki gleymt súkkulaðinu, það var svo girnilegt. Hún fer í annað sinn en móðir hennar neitar henni aftur. Hún er að leika sér með fötu og skóflu. Löngunin í súkkulaðið verður að þráhyggju, hún fer slag í slag og nauðar um tuttugu og fimm aura, en móðir hennar verður því -7-


ósveigjanlegri sem hún suðar meira. Það eru litlir peningar til og það verður Elísabet að skilja. Hún er orðin nógu stór til þess að skilja það. Hún er orðin fimm ára gömul. Hún situr úti á gangstéttinni með fötuna og skófluna og er að moka sandi í fötuna. Nú byrjar að rigna. Þó að gatan sé hvorki malbikuð né gangstéttin hellulögð skilur verklegur rennusteinn að götu og gangstétt. Hún byggir stíflu við rennusteininn. Vatnið fossar niður brattan stíginn og það er sama hversu mikinn sand hún ber í stífluna, alltaf flóir í gegn, alltaf hefur vatnið betur. Hana langar meira í súkkulaðið en nokkru sinni fyrr. Þá sér hún mann koma gangandi niður götuna. Það er eldri maður. Hann heldur á súkkulaði sem er vafið inn í hvítan umbúðapappír. Hann tekur hana í fangið og leggur vanga hennar að vanga sínum. Hún hallar vanga sínum að vanga hans. Vangi hennar er kaldur af regninu og hárið er blautt. Maðurinn er ég. Bróðir hennar. Mig er að dreyma en það veit hún ekki. Það veit ég ekki heldur vegna þess að ég er sofandi, á sjötugsaldri, en hún er löngu látin.

-8-


Meistaraverkið 1 Stundum var honum huggun í því að hugsa til þess að það var þó ekki Breti eða Ameríkani sem hafði gert dóttur hans ólétta heldur músíkant í danshljómsveit sem spilaði fyrir hermennina á Hótel Borg. Það var skömminni til skárra að þessi undarlegi drengur hafði komið undir áður en styrjöldin skall á. Drengurinn, sem var núna á áttunda ári, hafði alltaf verið undarlegur. En daginn áður, þegar fjölskyldan sat að borðum hafði hann slegið sjálfum sér svo rækilega við að afa hans leið hálfónotalega við að verða vitni að því. Drengurinn hafði allt í einu litið upp frá disknum sínum, bent til gluggans og sagt: – Ég sá hefðarmey á himninum í nótt. – Hefðarmey? spurði móðir hans. – Já. – Og var hún úti á götunni? spurði amman nærfærnislega.

-9-


– Nei, sagði drengurinn. – Hún var hátt yfir húsþökunum. Á himninum. Hún flaug! Nú heltók móður hans eitt þessara hláturskasta sem gerði að verkum að hún skar sig frá öðru fólki. – Hefðarfrú á himnum! Ég á ekki til eitt aukatekið orð í eigu minni, ha ha ha! – Segðu okkur betur frá þessari konu, sagði amman. Maðurinn fann til gremju. Allt sem var öðruvísi en hjá öðru fólki þótti honum óþægilegt. Og dóttursonur hans var svo sannarlega ekki eins og gengur og gerist. – En konan var svo falleg, sagði drengurinn. – Hún var bláklædd og hún hélt á gullinni hörpu og hún horfði á mig. Hún var kyrr á himninum lengi, lengi. Síða skikkjan hennar bærðist fyrir vindi þótt ég vissi að úti var logn. Og svo fór ég bara aftur í rúmið. – Ó, hún hefur bara verið að koma beint frá Guði til þess að segja þér að þú verður mikill músíkant alveg eins og hann pabbi þinn, sagði móðir hans. – Þess vegna hélt hún á hörpu. Hún hló af slíkri ákefð að hún táraðist. – Ó þú ert svo fyndinn krakki, sagði hún og tók andköf. – Þú ert svo fyndinn! – Nei, ég held að það hafi ekki verið ástæðan, sagði drengurinn hátíðlega. – Mér fellur ekki þegar þú reynir að þvinga mig til þess að spila á hljóðfæri. Mér finnst gaman að teikna. Ég hélt þú vissir það. Afi drengsins hafði tekið upp dagblað. Hann ætlaði sér að kíkja í það en fann hvergi gleraugun sín. – Hann sló létt á vestisvasann þar sem gleraugun voru vön að vera en þau voru ekki á sínum stað. – En hvað varstu að gera á fætur um miðja nótt? spurði amman. – Þurftirðu kannski að skreppa á klósettið? Hún elskaði drenginn og þolinmæði hennar þraut aldrei. Drengurinn leit á afa sinn. – Nei, mér þótti bara leiðin- 10 -


legt að ég setti smjör á betrekkið og langaði að vita hvort bletturinn væri farinn. – Nú, þar er komin skýringin, sagði afi hans og var mikið létt. Daginn áður hafði hann veggfóðrað stofuna. Í nýja veggfóðrinu var óreiðukennt mynstur sem virtist þrátt fyrir allt lúta föstu lögmáli og á meðan drengurinn var að dást að þessu hafði hann óvart sett smjörblett á vegginn undir stofuglugganum og verið skammaður fyrir. – Þú vaknaðir bara vegna þess að þér leiddist að hafa sett blett á betrekkið. Þig hefur dreymt þetta allt saman, sagði afi hans. – Nei, það var ekki þannig, kallaði drengurinn og varð allt í einu ákaflega æstur. Rödd hans bar því vitni að honum var mjög misboðið. – Konan var þarna. Ég er alveg viss! – Jæja, jæja, þá skulum við hafa það þannig, sagði móðir hans og var hætt að hlæja. – Nú skulum við ekki tala meira um þetta. – Ætlar þú að fara með honum í skólann á morgun? spurði amman. – Nei, sagði móðir drengsins. – Ég þarf að sinna hinu og þessu. Afinn leit á þau öll yfir blaðið og áður en hann yrði dreginn inn í hvað sem það nú annars var sem þau voru að skipuleggja sagði hann: – Jæja, ég er farinn í vinnuna. – Þetta er allt í lagi, sagði amman við drenginn. – Ég fer með þér. – Það er gott, sagði drengurinn áhyggjufullur. – Úrslitastundin er á morgun og ég vil helst ekki fara einsamall. Afinn var kominn út á tröppur og heyrði ekki meira af samtalinu. Hann horfði á bílinn sinn og varð rórra. Allt varð aftur eins og það átti að sér að vera. Hann var leigubíl- 11 -


stjóri og eins og lög gera ráð fyrir afar stoltur af bílnum sínum sem var fjögurra dyra Chevrolet, árgerð 1940.

2 Hann vaknaði á hádegi. Það var kyrrð í húsinu. Hann hafði verið að vinna þar til í birtingu og ekkert sérstakt hent – engir drukknir hermenn, engar erfiðar stúlkur sem þyrsti í kærastana í hernum sem voru í bröggum, bak við girðingar. Maðurinn lá kyrr góða stund og hlustaði eftir umgangi í húsinu. Þögnin var algjör. Af og til heyrðust vélarhljóð þegar bíl var ekið hjá. Hann kallaði á konu sína í myrkrinu og beitti fyrir sig þeim dimma tón sem venjulega varð til þess að hún kom inn í herbergið. Hún var vön að færa honum morgunkaffið í rúmið en nú svaraði hún engu, hún hlaut að hafa brugðið sér frá einhverra erinda. Allt í einu opnuðust dyrnar og dóttursonur hans kom inn. Drengurinn stóð og starði á hann eins og hann hefði komið að ókunnugum manni í rúmi afa síns. – Nú, jæja, sagði maðurinn að lokum. – Hvað vantar þig? Drengurinn starði stundum á hann þannig að honum leið ónotalega. – Amma sagði að þú ættir að fara með mig í bæinn og í skólann, sagði drengurinn. – Hvað sagði hún við þig? Í skólann! gall við í manninum. Hann hafði aldrei á ævi sinni komið þar inn fyrir dyr. – Að sjá sýninguna, sagði drengurinn. – Hvað ertu að segja? spurði maðurinn sem gerði þegar í stað ráð fyrir að um misskilning væri að ræða. – Amma varð að fara, sagði drengurinn. – Vinkona - 12 -


hennar varð skyndilega veik. Þú verður að fara með mig í bæinn. Að sjá sýninguna. Það er strax á eftir. Manninum gramdist. – Hvaða sýningu ertu að tala um? Hvað er um að vera? Hvar er hún mamma þín? – Sýningin á bestu teikningum og myndum eftir nemendur skólans verður opnuð í dag. Og mín teikning ber af þeim öllum, sagði drengurinn. Í fasi hans örlaði ekki á stolti, það var eins og hann tæki því sem sjálfgefnu að hann skaraði fram úr. Hann leit á úrið sitt. – Það er opnað klukkan eitt og við megum ekki verða of seinir. Afi hans fann fyrir sömu gömlu ónotunum. Hann var ekki vanur að fást við svona nokkuð. Hann var leigubílstjóri, með því móti sá hann fyrir fjölskyldunni, en þegar kom að kennurum sem voru lærðir menn og þar með hálfgert yfirvald, þá varð hann óöruggur. Honum leið best í leigubílnum – þar réð hann öllu og ók ekki öðrum en þeim sem honum sjálfum sýndist. Hina rak hann út. Drengurinn horfði á hann svipbrigðalaus. – Og hvað varð um hana mömmu þína? spurði maðurinn enn á ný. – Hún fór út með vinkonu sinni í gærkvöldi og er ekki enn komin heim, sagði drengurinn. Maðurinn fór fram úr. Hann hafði á tilfinningunni að hann ætti ekki að spyrjast frekar fyrir, að minnsta kosti ekki að svo stöddu. Hann fór í buxur og setti upp axlaböndin. Hann fann inniskóna sína með því að þreifa fyrir sér með fótunum undir rúminu og fór fram í eldhús. Hann yrði að sleppa morgunkaffinu. Hann hafði ekki hugmynd um hvernig hann átti að fara að því að hella upp á sjálfur. Eldhúsklukkuna vantaði tuttugu mínútur í eitt og drengurinn var niðurlútur og óstyrkur. – Og nefndi amma þín hvenær hún kæmi aftur? spurði maðurinn. Drengurinn hristi höfuðið og afi hans gaf upp - 13 -


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Meistaraverkið - sýnishorn by Forlagid - Issuu