Skip to main content

Flekkuð

Page 1

gerði það að verkum að ekkert var fjær henni en að hugleiða smán sína. Fæðingin gekk hratt fyrir sig og barnið skaust svo greiðlega í heiminn að ljósmóðirin var næstum búin að missa það á mold� argólfið. Hún hló að klaufaskap sínum í stað þess að hleypa í brýnnar eins og hún gerði venjulega og sérþekking hennar krafðist. Hún hafði tekið á móti börnum í rúm fimmtíu ár en hún var samt óvenju óróleg vegna þessa barns af því öllum var kunnugt um uppruna þess. „Það er stúlka,“ tilkynnti hún þegar hún hafði jafnað sig. Barnið orgaði ekki kröftuglega heldur kjökraði lágt en það and� aði eðlilega og augu þess beindust að daufu ljósinu þegar það brást við röddunum umhverfis sig með smákippum í bústnum útlimunum. Þetta var fallegt barn, vel skapað og andlit þess var engilfagurt. Ljósmóðirin hafði aldrei séð nýfætt barn svo bjart til augnanna svo skömmu eftir fæðingu. Stúlkan var ekki þrútin og fjólublá eins og svo mörg nýfædd börn heldur var litaraft hennar gullið eins og hunang. Rannsakandi svipur ljósmóður� innar mýktist upp í geislandi bros eins og fegurð barnsins væri henni einni að þakka. Hún gleymdi eitt augnablik ógeðfelldum uppruna þess og féll í stafi yfir dýrð þessa nýja lífs sem iðaði í höndum hennar. Lórena var næstum meðvitundarlaus af þreytu svo hún sofnaði á meðan konurnar tvær tóku barnið og þvoðu því. Ljós� móðirin bleytti klút í volgu vatni og þvoði lítið andlitið, hand� leggi og kvið og svæðið í kringum kynfærin, smá og fínleg eins og vera bar. Síðan þvoði hún læri og fætur áður en hún sneri stúlkunni við til að ljúka þvottinum. Þá gerðist það að Gabríela saup hveljur og ljósmóðirin var næstum búin að missa barnið úr höndum sér í annað skipti. Valbrá, þykk og rauð eins og opið sár, þakti smáar axlirnar, bakið og þjóhnappana og náði alveg niður að hnésbótum. Með skjálfandi höndum strauk ljósmóðirin rösklega yfir valbrána í von um að þetta væru aðeins saklausar leifar fylgjunnar en ár� 8

Pilagrimurinn.indd 8

24.4.2013 17:42


angurslaust. Það var ekki hægt að má þetta af frekar en skínandi augun eða lítinn munninn, samankipraðan í von um næringu. Hún lagði barnið í fáti á borðið og sagði: „Ég hef séð margar valbrár í öllum stærðum og litum en aldrei neina í líkingu við þetta. Þetta er ... þetta er eins og barnið hafi verið lagt í hönd hins illa sjálfs.“ Hún hirti lítilfjörlega þóknunina og fór án þess að sinna sínum vanaverkum eins og að gefa leiðbeiningar viðvíkjandi brjóstagjöf, aðhlynningu móðurinnar og fleiri góð ráð sem hún kunni. Gabríela lauk við að þvo litlu stúlkunni og sveipaði hana inn í notalegt teppi. Hún var ákveðin í að það fyrsta sem Lórena sæi af barninu sínu yrði fallegt og fullkomið andlitið sem var svo líkt hennar eigin. Morguninn eftir ætlaði Gabríela svo að skríða á hnjánum til kirkjunnar. Hún ætlaði að leggja af stað frá brunninum á miðju torginu og ekki nema staðar fyrr en við háaltarið. Hún ætlaði að biðja Guð alla leiðina um að fjarlægja valbrána. Lórena hafði þjáðst nóg þótt hún væri ung að aldri. Líf hennar hafði hafist í munaðarleysi og nú var hún búin að glata eina tækifærinu����������������������������������������������� til að fá gott gjaforð. Jafnvel sterkustu kon� ur gætu bugast vegna þessa vanskapnaðar og þrátt fyrir allan sjálfsagann var Lórena orðin svo brothætt. Hún var eins og stökkt sprek sem ekki þyrfti nema heitan vindgust til að kveikja í. Gabríela hafði haft áhyggjur af að hún lifði ekki meðgönguna af og beðið Carmen á hverjum morgni að ganga úr skugga um hvort systir hennar drægi enn andann í rúminu. „Sofðu nú, barnið gott,“ sagði Gabríela þegar hún varð vör við að Lórena bærði á sér. „Barninu þínu líður vel og þú getur skoðað það seinna.“ „Ég heyrði hana ekki gráta.“ „Henni líður ágætlega. Nú skaltu hvíla þig,“ sagði Gabríela sem vissi að hún þarfnaðist einhvers miklu meira en hvíldar til þess að lifa af það sem beið hennar. „Ég ætla að láta hana heita Jamilet,“ sagði Lórena furðu ákveðin af því að hún hafði alla meðgönguna neitað að taka þátt 9

Pilagrimurinn.indd 9

24.4.2013 17:42


í vangaveltum um nafn. „Nafnið birtist mér eins og fjarlægur söngur um leið og hún fæddist og ég fann svo mikinn frið þegar ég heyrði það.“ „Jamilet skal hún heita,“ sagði Gabríela og lagði sofandi barnið í kassa sem kom í vöggu stað. Þrátt fyrir góðan ásetning Gabríelu og þótt hún forðaðist ætíð að láta óviðeigandi orð falla um valbrána þekktu brátt allir þorpsbúar Jamilet sem engilinn með mark djöfulsins.������� Í upp� vextinum vandist hún óttablandinni virðingunni í svip þeirra sem litu á hana. Stundum horfði fólk á hana augliti til auglitis, stundum gægðist það fyrir horn eða gaut á hana augunum eins og draugar sem óttuðust hina lifandi. Í stórum augum hennar sjálfrar endurspeglaðist viss mildi og samúð og þegar hún var þriggja ára mætti hún forvitnu augnaráði ókunnugra með sömu hugarró og visku og prestur með skilning á öllum leyndardóm� um lífs og dauða. Þetta varð aðeins til að auka ótta þorpsbúa gagnvart henni. Hún var barn með fullkomið og fagurt mannsandlit en duldi viðbjóðslega iðu blóðs og vanskapnaðar sem enginn hafði séð en allir heyrt um. Sumir sögðu að þetta liti út eins og nýskorin kýr, aðrir að það væri eins og fjöldi snáka sem liðaðist um í blóðpolli. Þeir fáu sem höfðu raunverulega séð fyrirbærið fullyrtu að það væri ólýsanlegt og þeim hefði ekki komið dúr á auga í margar nætur á eftir. Lórena bar örlög sín eins og ólæknandi sjúkdóm sem kvaldi hana án afláts og saug úr henni þá litlu orku sem í henni bjó. Engu að síður tók hún píslarvætti sínu með reisn og bar höfuðið hátt í þau fáu skipti sem hún vogaði sér út fyrir hússins dyr. Hún hafði notið aðdáunar fyrir en nú báru þorpsbúar djúpa lotningu fyrir henni vegna hugrekkis hennar og að hún skyldi vera fær um að afbera bölvunina sem hvíldi á barninu hennar með svo óendanlegum virðuleika og sæmd. „Það er skynsamlegt af henni að halda stelpunni heima,“ 10

Pilagrimurinn.indd 10

24.4.2013 17:42


sögðu þeir þegar þeir sáu hana ganga eina eftir veginum þar sem ráðist hafði verið á hana. „Hún er svo ung og fögur. Hún gæti ef til vill enn fundið eiginmann ef hún væri ekki haldin þessari þráhyggju vegna barnsins. Henni myndi farnast betur ef hún yfirgæfi það eins og hún sjálf var yfirgefin.“ Höfuð hneigðust eins og þungir ávextir tilbúnir að falla af greinunum. „Hún helgar sig alveg stúlkunni og eyðir þeim litlu fjármunum sem hún á í að reyna að losa hana við mark djöf� ulsins. Ókunnugt fólk kemur heim til þeirra á öllum tímum. Stundum mjög seint að kvöldi en þá er glugganum lokað svo ég sé ekki hvað er á seyði.“ „Veslings Lórena,“ sögðu allir. „Veslings, veslings Lórena.“ Lórena öðlaðist örlitla von þegar sá tími kom að Jamilet átti að hefja skólagöngu af því hún vissi að dóttir hennar var ein� staklega vel gefin. Þegar hún var tveggja ára gat hún myndað fullkomnar setningar og skömmu síðar fór hún að semja og segja undraverðar sögur um allt mögulegt sem fyrir hana kom. Skordýrin sem hún fann á skikanum bak við húsið þar sem þær ræktuðu sílepipar hjálpuðu henni að stinga upp jarðveginn og vildu búa í myrkri undir steinum af því að þau voru feimin. Fuglarnir sem settust á gluggasylluna slúðruðu um nágrann� ann sem eyddi allri nóttinni á kamrinum og reyndi að losna við óþægindin sem fylgdu því að hafa innbyrt of mikið tekíla. Og tunglinu gramdist við börnin sín sem dreifðu sér um himin� hvolfið og neituðu að vinna skyldustörf sín. „Þú ættir ekki að vera svona reið við mig, mamma,“ átti hún til að segja. „Ég er ekki eins óþekk og stjörnurnar.“ Þá rann Lórenu reiðin og hún leyfði sér að brosa sem ella gerðist sjaldan. Þegar gáfur dóttur hennar yrðu mönnum ljósar hlytu þær að skyggja á allt annað, valbráin myndi ekki lengur skipta máli eða ef til vill gleymast alveg. Og svo þegar rétti tím� inn kæmi kynni hún að öðlast kjark til að segja dóttur sinni frá henni. Fram að þessu hafði Lórena bannað skottulæknunum 11

Pilagrimurinn.indd 11

24.4.2013 17:42


sem komu til að fást við valbrána að minnast á hana. Hún sagði þeim að segja í staðinn að þeir væru að tryggja að stúlkan yrði aldrei veik. Ef meðferðin var sársaukafull áttu þeir að segja að sársauki væri eðlilegur þegar slæmska væri að fara úr líkam� anum. Daginn sem Jamilet átti að mæta í skólann í fyrsta sinn var næstum þrjátíu gráðu hiti. Lórena krafðist þess samt að dótt� irin klæddist ermalangri blússu og peysu að auki. Hún lét hana lofa að fara ekki úr henni fyrr en hún kæmi heim um hádegið. Jamilet hélt einu námsbókinni sinni þétt að brjóstinu af því að henni hafði líka verið uppálagt að týna henni ekki. Amma hennar kvartaði yfir því að þær hefðu eytt meiri peningum í þessa litlu bók en í mat til heillar viku. Jamilet dáðist augnablik að kápumyndinni. Á henni voru drengur og stúlka á leið í skólann með bækurnar sínar og hún brosti þegar henni varð hugsað til þess að brátt yrði hún eins og þau. Jamilet þráði félagsskap annarra barna og fylgdist með úr glugganum á hverjum degi þegar þau fóru fram hjá eins og skærlitur straumur hláturs og fjörs. Hún hefði helst viljað vera samferða hinum börnunum án fylgdar móður sinnar en vissi að það þýddi ekkert að malda í móinn. Móðir hennar stjórnaði henni, ekki með reiði og refs� ingum heldur með þrúgandi þungri sorginni sem speglaðist í augum hennar. Sorginni létti aldrei nema þegar Lórena svaf. Um miðjar nætur þegar önnur börn voru gjarna að vakna af martröðum leið Jamilet þess vegna best þegar hún hjúfraði sig að móður sinni og fann þá huggun sem hún þarfnaðist. Þennan fyrsta skóladag tók Lórena í hönd dóttur sinnar þegar þær komu út á veginn og öll börnin steinþögnuðu á augabragði. Sum þeirra stukku yfir veginn og gengu hinum megin. Lórena herti takið og Jamilet var farið að sárverkja í höndina þegar þær komu að beygjunni á veginum nokkur hundruð metra frá skól� anum. 12

Pilagrimurinn.indd 12

24.4.2013 17:42


„Haltu áfram, Jamilet,“ sagði Lórena. „Ég skal fylgjast með þér héðan.“ Jamilet gerði eins og henni var sagt. Þótt hana langaði meira en nokkru sinni áður á sinni stuttu ævi til að snúa sér við og líta á móður sína, gerði hún það ekki af því að hún fann að hin börnin voru að horfa á hana. Þau fylgdust með göngulagi hennar og hvernig hún hélt bókinni fyrir framan sig líkt og skildi. Hún leit hvorki til vinstri né hægri heldur beint niður fyrir sig og var heilluð af glampandi spennunum á nýju skónum sínum sem skinu við henni við hvert fótmál. Hún heyrði börnin pískra en það var ekki áhyggjulaust og glaðlegt hvísl um saklaus gamanmál eða leiki. Jamilet þekkti nú þegar alltof vel niðurbæld einkenni óttans. Hún leit ekki upp og varð nú vör við smásteina sem skopp� uðu eftir veginum. Þeir minntu hana á hvernig vindurinn blés upp moldinni á akrinum á bak við húsið þegar hún var að sinna um sílepiparinn á skikanum þeirra. Henni sýndist það líkjast öfugsnúinni rigningu á leið upp til himins. Það var næstum ómögulegt að draga athygli ömmu hennar frá vinnunni. En meira að segja hún hafði rétt úr sér og litið upp til að sjá dökkt skýið rísa upp í loftið þegar Jamilet sagði henni söguna af öfug� snúnu rigningunni og hvernig moldin á akrinum hefði lifnað við þegar andardráttur Guðs lék um hana. Hún vissi að amman var líklegri til að hlusta ef sagan hafði örlítið trúarlegt ívaf en hún ætlaði að segja börnunum aðra útgáfu sem henni fannst betri. Hún var að velta því fyrir sér hvernig hún ætti að byrja á sögunni þegar hún varð vör við að steinarnir höfðu stækkað. Þetta voru lófastórir hnullungar sem vindurinn gæti með engu móti hafa lyft. Einn þeirra hitti hana í ökklann svo að hún hrasaði. Þá heyrði hún skelfingaróp móður sinnar og sá börnin standa í röð hinum megin við veginn. Sum þeirra héldu á steinum, önnur stóðu álút og skimuðu eftir meira grjóti. Lórena kom hlaupandi í áttina til hennar og úr augum hennar skein ekki sorg heldur ofsahræðsla. Jamilet hljóp líka. Hún vildi komast í 13

Pilagrimurinn.indd 13

24.4.2013 17:42


öryggið í faðmi móður sinnar þegar hræðilegt högg á gagnaug� að dró úr henni allan mátt. Áður en allt varð dimmt fann hún volgt blóðið renna inn í eyrað á sér og heyrði klukknahljóð svo hátt að hún gat ekki greint hvort börnin voru að fagna og hlæja eins og þau gerðu þegar hún fylgdist með þeim úr glugganum. Það fyrsta sem Jamilet sá þegar hún opnaði sljó augun var andlit móður sinnar. Hún lagði kalda grisju við höfuð dóttur sinnar og andlitið var aftur orðið þrútið af harmi. S�������������������� vo heyrði hún fyrir� ganginn í Gabríelu í eldhúsinu þar sem hún glamraði í pottum og pönnum. Hún átti það til þegar hún vildi láta í ljós vanþókn� un sína yfir takmarkaðri hjálp dætra sinna og eina barnabarns við húsverkin. Þennan daginn var þó allt önnur ástæða fyrir hávaðanum. Jamilet kveinkaði sér undan glamrinu og rétti út höndina eftir móður sinni. „Af hverju voru krakkarnir að henda í mig grjóti, mamma?“ Lórena lagði hönd hennar blíðlega aftur á rúmið. „Vertu nú róleg. Það er rétt hætt að blæða.“ Jamilet talaði nógu hátt til að amma hennar heyrði. „Ég ætl� aði að segja þeim söguna af öfugsnúnu rigningunni, amma, en ég fékk ekki tíma til þess.“ „Það er sniðug saga, Jamilet,“ sagði hún stuttaralega um leið og hún henti stórum potti í vaskinn og öðrum ofan á. Jamilet fann til skerandi sársauka í höfðinu og hélt niðri í sér andanum þangað til hann dofnaði og varð að viðvarandi seyð� ingi. Hún sneri sér aftur að móður sinni. „Af hverju hentu þau í mig grjóti, mamma?“ Lórena lagði hönd dóttur sinnar á umbúðirnar og yfirgaf her� bergið orðalaust. Hún kom aftur augnabliki síðar með spegilinn úr framherberginu undir annarri hendinni en í hinni hélt hún á litlum handspegli. Hún sagði dóttur sinni að snúa sér á hliðina og dró náttkjólinn eins hátt upp og hægt var. Síðan stillti hún stóra speglinum upp á bak við hana. 14

Pilagrimurinn.indd 14

24.4.2013 17:42


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Flekkuð by Forlagid - Issuu