– það hlýtur að hafa verið hræðilegt fyrir þig að eiga mig fyrir móður þegar þú varst lítil, Anne. – Heldurðu það? – Já. Aumingja þú. Það var sumarveður og síðdegissól á svölunum á íbúðinni minni í Ila í Þrándheimi og ég var búin að fá mér smók og farin að tína inn föt og diska og stinga í uppþvottavélina. Við höfðum verið með fjölmenna veislu á svölunum og í garðinum og gestirnir voru allt gamlir grannar okkar. Frá því að ég var krakki, frá því að mamma var ung og síðan fullorðin kona. Ég hafði boðið upp á Daim-ístertu, vöfflur með jarðar berjum, smákökur fullar af hnetum og súkkulaðibitum og glas af þurru madeira handa þeim sem máttu njóta slíks, voru hvorki á bíl né blóðþynningu. Þetta hafði verið dásamlegur dagur, einlægur, skemmtilegur og afslappandi, allan tímann. Eftir að mamma flutti til Óslóar var ég vön að bjóða gömlum vinkonum hennar heim þegar hún var í sumarheimsókn í Þrándheimi þó að hún stæði ævinlega gegn því og fyndist það allt of mikið umstang fyrir mig. Eins og venjulega vanmat hún dugnað minn, nema hún væri að gera sig til og fyndist í raun
7
og veru að ég ætti ekki að gera mér það ómak að skemmta gömlum vinkonum hennar. En ég hafði samt haldið þessum sið, sem ég hafði sjálf komið á, árum saman, alveg frá því að mamma flutti í örvæntingu suður til að losna úr loftslaginu í Þrándheimi og úr vinnunni sinni við að stjórna vélum í plastpokaverksmiðju, sem var full af kommúnistum, og verða lausamaður hjá Manpower fimmhundruð kílómetra frá eina barnabarninu sínu, syni mínum sem þá var fjögurra ára; þar sveik hún sem amma og ég hef eiginlega aldrei skilið hvernig hún gat lifað með þeim svikum. – Já, þú þarft ekkert að láta þér þykja vænt um mig, Anne, ég meina það. – Hvaða hvaða. Það er aldeilis. Hvers vegna læturðu svona einmitt núna? Hún var í blússu sem var eins og eggjarauða á litinn og svolítið þröng yfir stóran barminn, blússu sem ég hafði straujað fyrir hana fyrr um daginn í þakklætisskyni fyrir að hún hafði farið út í búð fyrir mig um leið og hún var opnuð klukkan níu um morguninn. Það sem mér fannst í sjálfselsku minni best við að hafa hana í heimsókn var hvað hún var tillitssöm við mig snemma á morgnana, löngu áður en ég fór sjálf á fætur. Ég var vön að gera allt fyrir alla á heimilinu en þegar mamma var hjá mér beið mín nýlagað kaffi, nýbökuð rúnstykki, dagblöð og allt sem var á innkaupalistanum. Hún tók líka ævinlega með sér tómu flöskurnar sem hún fann undir eldhúsbekknum, hún vissi hvað ég þoldi illa tómar flöskur sem hauguðust upp, hún vissi líka að stundum henti ég þeim í ruslið, henni til sárrar hneykslunar. Þar að auki hafði hún tæmt uppþvottavélina frá kvöldinu áður og þurrkað bekki og borð. Og hún ávarpaði mig ekki fyrr en hún heyrði mig kveikja í fyrstu sígarettu dagsins. 8
Morgnar með mömmu í heimsókn voru alveg indælir. Mér leið eins og ekta dóttur, eins og henni þætti vænt um mig. Svo ég var í góðu skapi þegar ég staflaði upp smádiskum og líkjörsglösum og tilkynningin kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þó var hún ekki óvænt, ég var þaulvön þrumum úr heiðskíru lofti þegar mamma var annars vegar. Ekki síst þegar við höfðum verið nokkra klukkutíma með öðru fólki og sett okkur inn í líf þess og hún hafði látið myrkar hugsanir malla á hitaplötu innst í huganum meðan við mösuðum saman. – Ég fer að hugsa um ýmislegt þegar ég er með þessum konum. Þær voru kærleiksríkar mæður, Anne. Það var ég ekki. – Hvaða bull. Allar mæður voru eins á þeim tíma, allar þvoðu þvotta og bjuggu til mat og höfðu engan tíma fyrir krakkana. Engar mæður voru kærleiksríkar. Nú á tímum snýst heimurinn um hvert einasta barn. Þið höfðuð ekki tíma til slíks. – Manstu þetta svona? Hún horfði beint á mig, grágræn augun risastór bak við þykk gleraugun. – Bíddu aðeins meðan ég ber þetta inn, svo færðu annað glas af madeira. Og ég verð að fá mér bjór, ég er komin með upp í kok af madeira og jarðarberjum. – Ég get ekki heldur drukkið meira madeira. – En hvað með eggjasnafs? – Ja, það væri ekki svo vitlaust. Bara einn lítinn. Ég raðaði í uppþvottavélina, stakk litla plastpakkaða sápu bitanum í hólfið sitt og kveikti á vélinni. Niðurinn í hreina vatninu sem fór undir eins að streyma inn í vel hannað þvottakerfið róaði mig dálítið. Helst hefði ég viljað sitja þarna grafkyrr með kaldan bjór, síðustu klukkustundir höfðu verið 9
þrungnar röddum sem gripu hver fram í fyrir annarri, hlátri, sameiginlegri fortíð, gömlum sögum, það hefði verið gott að leyfa þessu að setjast til, ég fór alltaf að muna einkennilegustu hluti úr æsku minni þegar ég var með þessum konum. Þær litu á mig sem litla stelpu, stelpu sem ég var ekki lengur, og ég gleypti í mig hverja sögu sem fjallaði um þessa stelpu, það hefði verið ágætt að fá að melta þær smástund. Allt í einu þráði ég heitast að það kæmi óvæntur gestur og hringdi bjöllunni niðri því ég hafði varla orku til að eiga þetta samtal. Ég vissi hvað var í vændum. Hún sat þarna úti og beið eftir mér, í gulu blússunni sinni, og hefði brátt jafn gulan eggjasnafs fyrir framan sig, alveg að springa af iðrun og kunnuglegri játningaþörf. Ég setti pínulítið konjak út í eggjasnafsinn, hún tæki ekkert eftir því þótt hún þyldi ekki mikið, enda drakk hún næstum aldrei áfengi. Kannski myndi konjakið slá á þessa viðkvæmni og opna á annað umræðuefni svo að hún yrði aftur glöð. Ég vildi að hún væri glöð, allt sem ég gerði var til að gleðja hana og vissulega var hún glöð meðan skemmtunin stóð yfir, en á eftir kom þunglyndið yfir því að henni væri lokið, að hún væri horfin, orðin að fortíð. Mamma var sérfræðingur í að syrgja rækilega allt gott sem liðið var. Og nú var það þessi góði dagur í sólskininu með gömlum vinkonum, vöfflum og jarðarberjum. Ég setti glasið með eggjasnafsinum á borðið hjá henni og bjórinn hjá mér og kveikti í sígarettu. Hárið á henni var dökkt og rakt við hársræturnar, það var heitt, áreiðanlega tuttugu og fjórar gráður í skugganum, fyrir ofan svitaröndina var hárið snarhrokkið, hún fékk sér permanent sjöttu hverja viku og lét nægja að greiða það eftir sturtuna. – Veistu hvað ég las einhvers staðar einu sinni, Anne? – Nei, mamma. 10
– Maður er skyldugur til að elska börnin sín en ekki til að elska foreldra sína. – Það stendur í Biblíunni að maður eigi að heiðra föður sinn og móður. – Hvaða vitleysa, Anne. Ertu drukkin? – Af þrem oggulitlum glösum af madeira? Nei. Ekki beint. – Biblíunni ... Guð minn góður, aldrei hef ég heyrt annað eins. Þar fyrir utan er það ekki það sama að heiðra og elska. Að heiðra er bara að halda sér saman og hlýða. – Segðu mér, mamma, varst það ekki þú sem tókst þátt í því á sínum tíma að smygla Biblíum inn í gömlu Sovétríkin? Halló? – Það er allt annað. Það var uppreisn gegn harðstjórninni! Ef það hefðu ekki verið Biblíur hefðu það verið sundkútar eða ryksugur. Allt sem var bannað. Þú skilur það líklega. – Tja ... En samt. – Ég hataði móður mína. – Já, ég veit það. Skál, mamma, fyrir dásamlegum degi. Ég lyfti bjórglasinu í átt til hennar, hún fitlaði við glasið sitt, vildi ekki horfa á mig. – Við erum orðnar svo gamlar allar ... – Rúmlega sjötugar? Það er ekkert gamalt. – Jú, Anne. Það er gamalt. Auðvitað er það gamalt. Auðvitað er það gamalt. Allt er orðið um seinan. Allt. Hún lyfti glasinu, eitt andartak hélt ég að hún myndi henda því beint framan í mig og ég var í þann veginn að beygja mig þegar hún tæmdi það í einum teyg. Barkakýlið var oddmjótt og sólbrúnt, hún lá í sólbaði alltaf þegar hún gat, smurð í Spenol, fór í sólbekk tvisvar í viku allan veturinn. Ég andaði að mér reyknum svo mig sveið í munninn, það var ekki von á manninum mínum fyrr en eftir tvo tíma í fyrsta lagi, þetta gæti orðið langur dagur. Sem betur fór datt mér kvöldmaturinn í hug og ég sagði: – Ég bý til kartöflurétt með steinselju, hvítlauk og kóríander 11
í kvöldmatinn og hef sumarskinku og baunir með, hljómar það ekki vel? Ég á rosalega góða rauðvínssósu í frystinum. Hún er búin til úr kjúklingaseyði en passar mjög vel við samt. – Það verður fínt, Anne. Þú ert fínn kokkur. – Lærði það af þér, sko. – Já, þið fenguð góðan mat, þið Elín, ég má eiga það. – Já, það máttu eiga. – Þó að peningarnir væru af skornum skammti. – Þér varð mikið úr þeim af því það varð allt gott hjá þér, sama hvað það var. – Nóg af fitu og salti, Anne. Smjöri ef ég hafði efni á því, annars smjörlíki. Bestu bragðefni í heimi. – Það er svo gaman að tala um mat við þig, mamma. – Búa hann til, borða hann, tala um hann. En manstu til þess að ég hafi nokkurn tíma tekið þig í fangið og knúsað þig? Verið nálægt þér. Mér tókst akkúrat að renna augunum til hliðar áður en augu okkar mættust. – Ég man það kannski ekki alveg en þú last mikið fyrir mig, sagði ég. Nú var ég komin út á dýpi sem ég gat ekki botnað í, ég fann það um leið og ég sleppti orðinu. – Almáttugur ... en sú móðir sem ég hef verið. Las! Eins og það komi í staðinn fyrir ást. – Nú, ég varð rithöfundur. Það getur vel verið tengt þessum lestri. – Þú varðst rithöfundur alveg á eigin vegum, Anne. Ég hrósa mér ekki af því. – En það geturðu gert samt. Ég ólst upp með bækur allt í kringum mig. – Mér tókst heldur betur til með Elínu. Kannski af því hún var svo mikið veik og var alltaf við það að deyja í fanginu á mér. Ég söng fyrir hana og knúsaði hana ábyggilega alveg þangað til hún byrjaði í skóla. Það gerði ég aldrei við þig. Ég 12
hafði þig á brjósti þangað til þú varst sex mánaða og þá varstu í fanginu á mér en eftir það ... Ég las ekki eins mikið fyrir Elínu, ég náði því ekki. Kannski er það málið, annaðhvort bækur eða ást. Hún fór að gráta, tók af sér gleraugun, konjaksskvettan hafði greinilega haft öfug áhrif. Hún nuddaði augun með krepptum hnefa, mér hafði alltaf þótt sárt að horfa á hana nudda augun svona, eins og lítið barn. – Ææ, nú er ég líka farin að skæla ... – Skil ekki hvernig þú nennir að hugsa um þetta einmitt núna. Og svo blotnar fína blússan þín. Á ég að búa til kaffi handa þér? Annan eggjasnafs? Eða Captain Morgan? – Anne! Ekki fer ég að drekka romm núna ofan á allt annað! – Geturðu ekki bara haldið fast í að við höfum átt indælan dag með gömlu vinunum úr blokkinni, ha? – Nei, ég get það ekki. Því miður. Ég ætla að fara niður og hvíla mig smástund. Og þakka þér innilega fyrir hvað þú gerðir þetta allt vel. Ég er ótrúlega þakklát, máttu vita. Ég heyrði fótatak hennar í hringstiganum. Það var þunglama legt. Ég drap í sígarettunni og bar glasið hennar inn, þvoði það í höndunum af því að vélin var komin af stað, skolaði borðtuskuna vandlega og fór út og þurrkaði af borðinu á svölunum og í garðinum. Hún hóstaði niðri í gestaherberginu en sem betur fór heyrði ég ekkert gráthljóð í hóstanum. Þegar hún vaknaði myndi hún gleðjast yfir góðum mat og spjalla glaðlega við manninn minn og hlakka svo til að sjá eitthvað í sjónvarpinu. Kannski myndum við spila Trivial Pursuit, hún var vön að gersigra okkur í þeim leik, henni fannst varið í það og það létti alltaf lundina.
13