vagni, og fremst sat mjög gamall maður sem hafði komið inn í Malmköping. Sá sat einmitt og furðaði sig á því hvers vegna hann hefði stolið fjórhjóla ferðatöskunni. Kannski vegna þess að hann gat það? Eða af því eigandinn var dóni? Eða af því taskan hafði kannski að geyma skópar eða hugsanlega hatt? Nei, Allan gat ekki svarað sjálfum sér. Þegar lífið er komið á framlengdan tíma þá er auðvelt að taka sér frelsi, hugsaði hann og kom sér vel fyrir. Klukkan sló þrjú og rútan fór framhjá Björndammen. Allan var enn sem komið var ánægður með hvernig dagurinn hafði þróast. Svo lygndi hann aftur augunum til þess að fá sér síðdegislúr. Á sömu stundu bankaði Alice hjúkrunarkona á hurðina á herbergi númer 1 á elliheimilinu í Malmköping. Hún bankaði aftur og svo aftur. – Nú er ekki tími til þess að vera með neinn mótþróa Allan. Bæjarfulltrúinn og allir er mættir. Heyrirðu það? Þú ert þó ekki farinn að eiga við flöskuna aftur, Allan? Nú kemur þú út Allan! Allan? Nokkurn veginn á sömu stundu opnaðist hurðin á eina nothæfa klósetti ferðamiðstöðvarinnar í Malmköping. Út steig ungmenni sem var léttari í tvöföldum skilningi. Hann gekk nokkur skref í átt að miðjum biðsalnum á meðan hann lagaði beltið með annarri hendinni og renndi hinni í gegnum hárið. Svo stoppaði hann, starði á tómu bekkina tvo, leit síðan snöggt til hægri og svo vinstri. Því næst sagði hann hátt: – Hvað í helvítis andskotans djöfulsins helvíti … Svo stoppaði hann áður en hann byrjaði aftur: – Þú verður drepinn karlskratti. Ég þarf bara að finna þig fyrst.
~ 14 ~
3. k afli
Mánudagur 2. maí 2005
Strax eftir klukkan þrjú síðdegis 2. maí var rólegheitunum lokið í Malmköping. Alice hjúkrunarkona á elliheimilinu varð óróleg í stað þess að verða reið og sótti höfuðlykilinn. Þar sem Allan hafði ekkert gert til þess að dylja flóttaleið sína var hægt að fullyrða strax að afmælisbarnið hafði klifrað út um glugg ann. Þar hafði hann, af sporunum að dæma, staðið og tvístigið um stund innan um stjúpurnar og síðan horfið. Í krafti embættis síns hafði bæjarfulltrúinn tekið stjórnina í sínar hendur. Hann skipaði starfsfólkinu að fara út og leita í pörum. Allan gat ekki verið langt í burtu og pörin áttu að ein beita sér að allra nánasta umhverfinu. Einn hópur fór í garðinn, annar í Ríkið (þar sem Alice hjúkrunarkona vissi að Allan lagði stundum leið sína), þriðji hópur fór í búðirnar við Storgatan og sá fjórði í hverfin uppi á hæðinni. Bæjarfulltrúinn ætlaði sjálfur að halda kyrru fyrir á elliheimilinu og líta eftir þeim gamlingjum sem enn voru til staðar og hugsa um næstu leiki í stöðunni. Hann bað leitarmenn líka að láta ekki mikið á sér bera, það væri ónauðsynlegt að þetta færi hátt. Í uppnáminu sem skapaðist hugsaði bæjarfulltrúinn ekki út í að eitt parið sem hann sendi út til leitar samanstóð af blaðamanni bæjarblaðsins og ljósmyndara þess. *** ~ 15 ~
Ferðamiðstöðin var ekki á forgangslista bæjarfulltrúans. Þar hafði hins vegar mjög reiður, grannur ungur maður með sítt ljóst og feitt hár, gisið skegg og í gallajakka með áletruninni Never Again á bakinu leitað í öllum skúmaskotum byggingar innar. Þar sem hvorki gamlingja né tösku var þar að finna stikaði ungi maðurinn ákveðið að litla karlinum í lúgunni, í þeim staðfasta ásetningi að verða sér úti um upplýsingar um ferðaáætlun gamlingjans. Litli karlinn var vissulega orðinn leiður á starfi sínu, en hann hafði enn sínar starfsreglur í heiðri. Þess vegna útskýrði hann fyrir æstu ungmenninu að persónuvernd viðskiptavina ferðarmiðstöðvarinnar væri þar í hávegum höfð, ferðaáætlanir þeirra væru ekki bornar á torg, þeirra réttur væri ótvíræður, og sagði svo, nokkuð drjúgur með sig, að hann myndi ekki undir neinum kringumstæðum gefa ungmenninu nokkrar upplýsingar af því tagi sem hann hefði falast eftir. Ungi maðurinn stóð þögull um stund og virtist vera að þýða það sem litli karlinn sagði yfir á sænsku. Því næst færði hann sig fáeina metra til vinstri, að frekar veigalítilli hurð að sölukompunni. Hann hafði ekki fyrir því að athuga hvort hurðin væri læst. Í staðinn sparkaði hann í hurðina með hægri fæti svo að flísarnar flugu úr falsinu. Litli karlinn náði ekki einu sinni að lyfta símtólinu sem hann hafði gripið til í þeim tilgangi að kalla eftir hjálp, áður en hann spriklaði í lausu lofti fyrir framan ungmennið sem hélt honum uppi á báðum eyrum. – Ég veit kannski ekki hvað persónuvernd er, en ég er djöfull góður í að fá fólk til að tala, sagði ungi maðurinn við litla karlinn áður en hann lét hann detta niður í skrifstofustólinn. Svo útskýrði sá ungi hvað hann hygðist gera við kynfæri litla karlsins, með hjálp hamars og nagla, ef litli karlinn gerði ekki eins og honum væri sagt. Lýsingin var svo litrík að litli ~ 16 ~