Skip to main content

Fjarðarfréttir 20. september 2018 - 34. tbl. 16. árg.

Page 1

www.fjardarposturinn.is

Finndu okkur á

Fimmtudagur 20. september 2018 | 34. tbl. 16. árg. Upplag 10.500 eintök.

Dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki í Hafnarfirði

www.fjardarfrettir.is öflugur fréttavefur

LÆKJARGATA 34

ÁLFASKEIÐ

Falleg 114 m² 4ja herb.íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli. Stæði í bílageymslu fylgir og innangengt er úr stigahúsi í það. Verð 43,9 millj.

Sérlega fallegt 194 m² einbýli mið­ svæð­is í bænum með 4 svefn­herb. og potti. Auk þess er góð aukaíbúð með sér inngangi í bílskúr. Verð 81,9 millj.

Hafði gert bindandi tilboð – þó með ýmsum skilyrðum lenskra stjórnvalda og við­ skipta­­banka og átti viðskipt­ un­ um að ljúka á öðr­ um ársfjórðungi 2018. Í tilkynn­ ingu frá Norsk Hydro sl. föstudag segir að samþykktar­

Ljósm.: Guðni Gíslason

Dalshrauni 5 Opið kl. 8-17 virka daga

ðili: Aðalstyrktara

Björt og skemmtileg 4ja herb. 121,8 m² endaíbúð á 1. hæð með sér inn­­­­­gangi, gott að­gengi. Engar tröppur. Bílskúr. Suður svalir. Verð 39,8 millj.

Norsk Hydro og Rio Tinto hafa slitið samningaviðræðum um kaup Hydro á álverinu í Straumsvík að ósk Norsk Hydro. Í febrúar sl. gerði Hydro bindandi tilboð um að kaupa af Rio Tinto, Rio Tinto Iceland ehf. (ISAL), 53% hlutdeild í hollensku raf­ skauta­­­verksmiðjunni Alu­ mini­um & Chemie Rotterdam BV og 50% hluti í sænska álflúoríð álverinu Alufluor AB fyrir um 345 milljónir USD. Tilboðið var háð ýms­ um skil­yrðum m.a. sam­þykki sam­­keppnis­yfirvalda, ís­­

BIFREIÐASKOÐUN

Ratleikur

BRATTAKINN

Norsk Hydro hættir við kaup á álverinu í Straumsvík

Sími: 555 7030 www.burgerinn.is

STAÐARBERGI

ferli Evrópu­sam­bandsins hafi tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir og ekki sæi fyrir endann á því. Því hafi orðið að samkomulagi að ljúka samn­ ingaviðræðum.

Álverið í Straumsvík verður áfram í eigu Rio Tinto.

Stofnuð 1983

TÖLVUÞJÓNUSTA Alhliða tækniþjónusta fyrir þitt fyrirtæki

546 6000 Firði, Fjarðargötu 13-15

Skoðaðu tertuúrvalið á kokulist.is

Kökulist verslunarmiðstöðinni Firði Hafnarfirði Kökulist Hólagötu 17 Reykjanesbæ Kökulist Iðnbúð 2 Garðabæ Kokulist@kokulist.is · 555 66 55

21 Síðasta ratleikshelgin! rðar 2018

Hafnarfja

RAT-018

ÚSIÐ EHF - 896

merk ast færið Vinsamleg

HÖNNUNARH

ur com/ratleik facebook. .is eikur.blog www.ratl stað! ið EKKI úr

4613

er 2017. 24. septemb stendur til m sé skilað í Ratleikurinn þegið að merkjunu . Eftir það er vel er bæjarins í Ráðhúsinu síðunni þjónustuv vita á Facebook Látið gjarnan og skilað. tekið merki ef þið hafið

Ratleikur

Hafnarfjarðar

stendur til 25. september!

Kýrskarð /Dalaleið

Fylgstu með á www.facebook.com/ratleikur

Rat

leikur

Hafnarfjarð ar Sumarið 20

18


2 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason Ritstjórn og auglýsingar: 565 4513, 896 4613 fjardarfrettir@fjardarfrettir.is Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Póstdreifing ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866

www.fjardarfrettir.is www.facebook.com/fjardarfrettir.is Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði

leiðarinn Fólki er tíðrætt um siðferði í samskiptum fólks. Slíkar um­ ­ ræður tengjast yfirleitt alltaf einhverjum brotum eða meint­ um brotum og umræðan fer á flug. Margir setjast í dómarasæti og dæma áður en rannsókn hefur farið fram. Me-too byltingin svokallaða hefur heldur betur hrist upp í íslensku samfélagi og gert fólk meðvitað um óvirðingu fólks í garð hvers annars og nauðsyn þess að bæta siðferði í samskiptum fólks. Við lifum í nýjum heimi þar sem fólk hefur áttað sig á því að það á ekki að líða kynferðislegt áreiti eða einelti í mannlegum samskiptum. Samt virðist orðræðan sjaldan hafa verið hvassari en núna og sést best á athugasemdakerfum blaðanna þar sem dómharkan er með ólíkindum. Ekkert skal fyrirgefið og fólk er annað hvort alslæmt eða flekklaust. Spurningin er hvort einhver sé alveg flekklaus þegar kemur að mannlegum samskipt­ um. Sennilega ekki en auðvitað skiptir máli hvers eðlis hnökrar á mannlegum samskiptum eru. Fólk segir ýmislegt í hita leiksins en á að hafa manndóm til þess að biðjast afsökunar og vera viðbúið að taka afleiðingum af gjörðum sínum. Þeir sem dæma harðast vilja ekki leyfa brotamönnum að fá vinnu neins staðar og heldur ekki að fá að búa neinstaðar. Hvað þýðir slík dómharka? Við þurfum að þrýsta á að tekið sé á málum sem upp koma og að þau fái sanngjarna úrvinnslu. Fólk spari stóru orðin og bíði þar til niðurstaða hefur fengist. Allir eiga rétt á sanngjarnri rannsókn, líka meintur brotaþoli. Við Íslendingar megum leggja meiri áherslu á siðferði, bæði í samskiptum fólks og líka í við­ skiptum. Ásakanir um óheiðarleika gagnvart starfsfólki í veitingageiranum ber að taka alvarlega og rannsaka. Auka þarf siðferði í rekstri fyrirtækja og opna aðgengi að upplýsingum. Almenningur er besta aðhaldið. Guðni Gíslason ritstjóri.

Auglýsingar sími 565 3066 - 896 4613 gudni@fjardarfrettir.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahraun 5a

ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA

Sverrir Einarsson

Margrét Á. Guðjónsd. Kristín Ingólfsdóttir

Hannes Ó. Sampsted

Símar allan sólarhringinn: 565 5892 & 896 8242 Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er www.utfararstofa.is

Víðistaðakirkja Sunnudagurinn 23. september

Messa kl. 11 Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur: Sr. Stefán Már Gunnlaugsson

Sunnudagaskólinn kl. 11 Fjölbreytt og fræðandi dagskrá. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. www.vidistadakirkja.is

Sunnudagur 23. september

Fjölskyldumessa og sunnudagaskóli kl. 11 Fermingarbörn og ungir söngvarar sjá um stóran hluta stundarinnar.

Þriðjudagur 25. september

Orgeltónleikar kl. 12.15 Aðgangur ókeypis.

TTT, 10-12 ára starf Alla fimmtudaga kl. 17. Öll 10-12 ára börn velkomin.

Morgunmessa Miðvikudaga kl. 8.15-8.45 Léttur morgunverður á eftir. Sunnudagur 23. september

Sjá nánar á www.hafnarfjardarkirkja.is www.facebook.com/hafnarfjardarkirkja

Messa og sunnudagaskóli kl. 11 Miðvikudagur 26. september

Starf eldri borgara kl. 13:30 Brynja Baldursdóttir íslenskufræðingur: Karlar í Njálu I (Mörður, Kári og Flosi).

Sunnudagurinn 23. september:

Sunnudagaskóli kl. 11 Líf og fjör í kirkjunni og allir velkomnir.

Foreldramorgnar

á miðvikudögum í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 10-12.

www.astjarnarkirkja.is

Nánar á www.frikirkja.is og á Facebook

Mótmælasíða gegn framkvæmdum við Fornubúðir www.sudurbakki.is Guðmundur Ingi Markússon hefur sett upp mótmæla­síðu gegn framkvæmdum á Fornubúðum en andmælafrestur er til 8. október nk. Slóðin á síðuna er www.sudurbakki.is og er hún með upplýsingum, leiðbeiningum um andmæli - og myndum, en Guðmundur Ingi telur bæjaryfirvöld sitja á slíkum upplýsingum sem ormur á gulli. Guðmundur Ingi stendur einnig fyrir herferð á Facebook - ásamt íbúum í Suðurbæ.


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

www.fjardarfrettir.is

67 umsóknir eftir félagslegum leigubúðum í Hafnarfirði Vantar 221 íbúð svo þær verði hlutfallslega jafnmargar og í Reykjavík Á síðustu rúmum fjórum árum hefur Hafnarfjarðarbær keypt 21 íbúð inn í félagslega íbúðakerfið en að teknu tilliti til íbúafjölda þyrfti Hafnarfjarðarbær að fjölga íbúðum um 221 til þess að íbúðir innan kerfisins teldust jafn marg­ ar og í Reykjavík. Í Hafnarfirði eru 257 leiguíbúðir eða 8,7 á hverja 1.000 íbúa en voru 7,9 í lok árs 2015. Þetta kemur m.a. fram í svari við fyrir­spurn fulltrúa Samfylk­ingarinnar frá 17. ágúst 2018 og lagt var fram á fundi fjölskylduráðs í síðustu viku. Í Reykjavík eru íbúðirnar 16,3 á hverja 1.000 íbúa og því vantar um 221 félagslega leiguíbúð í Hafnarfirði svo þær væru hlutfallslega jafn margar og í Reykjavík. Þó vantar verulega upp á í Reykjavík að þar sé hægt að anna eftir­ spurn. Í svari fjölskylduþjónustu Hafnar­ fjarðar kemur fram að verið sé að endurmeta umsóknir á biðlista en á núverandi biðlista eru 67 umsóknir og af þeim eru 29 umsækjendur metnir í

brýnni þörf. Ekki kemur fram hversu margir einstaklingar eru á bak við þessar umsóknir en af þeim 29 umsókn­ um sem eru í forgangi eru 18 frá barn­ lausum einstaklingum og í 11 umsókn­ um eru samtals 15 börn á fram­ færi umsækjenda. Eru umsækjendur í brýnni þörf því á bilinu 44-55. Í svarinu er upplýst að í Reykjavík eru 944 umsóknir eftir félagslegum íbúð­um, rúmlega þrefalt fleiri á hverja 1.000 íbúa en í Hafnarfirði og meðal­ biðtími eftir íbúð 3 ár og 2 mánuðir. Meðalbiðtími í Hafnarfirði er nokkuð misjafn eftir stærð íbúða en 3ja ára bið er eftir einstaklingsíbúð og 2ja herb. íbúð, 2 ár og 3 mánuðir eftir 3ja herb. íbúð, rúmt ár eftir 4 herb. íbúð en 7 og hálft ár eftir 5 herb. íbúð! Þá kemur fram að frá 2014 hafa verið keyptar 21 íbúð, engin 2014 eða 2015, fjórar 2016, átta 2017 og níu 2019.

UNDIR LANDSMEÐALTALI

fjöldi félagslegra íbúða á landinu voru 10,5 á hverja 1.000 íbúa í árslok 2015 en þá var fjöldinn 7,9 í Hafnarfirði. Fjöldi félagslegra íbúða pr. 1.000 íbúa í árslok 2015 Reykjavík 15,5 Akureyri 12,2 Kópavogur 9,1 Hafnarfjörður 7,9 Garðabær 1,2 Landið allt 10,5

Eiríkur er nýr skólastjóri Tónlistar­ skólans 1/2 Hundur í óskilum Eiríkur G. Stephensen hefur verið ráðinn nýr skólastjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en Gunnar Gunnarsson sagði starfi sínu lausu í vor.

Heimild: Félagsbústaðir

„Svörin sýna því að nauðsynlegt er að setja aukinn kraft í að fjölga íbúðum í félagslega kerfinu til þess að mæta þeirri brýnu þörf sem er til staðar og stytta biðtíma,“ segir í bókun fulltrúa Sam­fylkingarinnar í fjölskylduráði. Ekki eru til tölur um það hversu margar félagslegar íbúðir þurfi að vera til í Hafnarfirði til að mæta þörf en unnið er að húsnæðisstefnu fyrir sveit­ ar­félagið.

Í tölum frá Félagsbústöðum, sem birtar eru í svarinu, kemur fram að

Fjörugt á hausthátíð Fjölmennt á Víðistaðatúni og rigningin fór í frí Hausthátíð Víðistaðakóla var haldin á Víðistaðatúni sl. þriðjudag en hátíðin var skipulögð af foreldrafélagi skólans. Ingó veðurguð stjórnaði brekkusöng en eftir mikinn rigningardag stytti upp þegar hátíðin hófst. Pylsur voru grillaðar, poppað var, boðið upp á andlitsmálun, og ýmsa leiki. Allir virtust skemmta sér vel enda nóg að gera á Víðistaðatúni. Tíundu bekkingar buðu upp á andlitsmálun.

Ljósmyndr: Guðni Gíslason

3

Eiríkur G. Stephensen. Eiríkur er skólastjóri Tónlistarskóla Eyjarfjarðar en líklega þekktastur sem helmingur af dúettnum „Hundur í óskilum“ þar sem hann hefur sýnt undraverða hæfilega við að leika á mörg blásturshljóðfæri í einu. Eiríkur er Kópavogsbúi að uppruna, rétt tæpra 56 ára gamall. Hann lauk blásarakennaraprófi 1995 frá Tón­ listarskólanum í Reykjavík frá blásara­ kennaradeild. Hann var gestanemandi í Hochschule für Musik Hans Eisler 1986 til 1987. Eiríkur lauk prófi frá tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík 1992. Hann lauk meistara­ prófi í mennta- og menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst 2017. Hann var tónlistar­kennari á Dalvík 1992 til 1997 og frá þeim tíma skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Kona Eiríks er María Gunnarsdóttir tónmennta­ kennari Aðrir umsækjendur um stöðuna voru: Anna Sigurbjörnsdóttir, tónleikastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Alex­ andra Chernyshova, söngkona, tón­ skáld og kennari, Elín Anna Ísaksdóttir, fagstjóri og verkefnastjóri við Lista­ háskóla Íslands, Eyþór Ingi Kolbeins tónlistarskólastjóri, Hannes Guðrúnar­ son tónlistarmaður og Sigrún Grendal, tónlistarkennari og formaður Félags kennara og stjórnenda í tón­listarskólum. Einn umsækjandi dró umsóknina til baka


4 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

Jafntefli í æsispennandi Hafnar­fjarðar­ slag Hauka og FH í handbolta karla þeim buxunum að tapa fyrir Haukum á Ásvöllum sem ekki hafði unnið leik liðanna í þrjú ár á heimavelli. Haukar voru yfir í hálfleik, 16-14. Haukar skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiks og komust í 3ja marka forskot en lengra hleyptu FH-ingar þeim ekki og nokkrum mínútum síðar voru þeir

Ljósm.: Guðni Gíslason

Ljósm.: Guðni Gíslason

Haukar og FH mættust 12. september sl. á Ásvöllum í fyrstu umferð Íslands­ mótsins í handknattleik karla. Góð stemmning var í höllinni en um 1.100 áhorfendur horfðu á leikinn. Haukar byrjuðu vel og voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleik og náðu mest 5 marka forskoti. FH-ingar voru ekki á

Jóhann Birgir Ingvarsson var gríðarlega öflugur í liði FH.

Atli Már Báruson var óstöðvandi í liði Hauka með 10 mörk. búnir að jafna 18-18. Eftir það var jafnt á öllum tölum en Haukar oftast skrefi á undan þó FH-ingar hafi tvisvar komist yfir, í stöðunni 21-20 og 22-21. Síðustu 10 mínúturnar voru afar spennandi og nokkur hraði í leiknum og hart spilað. Á síðustu mínútu skoraði Jóhann Birgir Ingvarsson 9. mark sitt og jafnaði í 29-29. Haukar klúðruðu sókn sinni og FH-ingar brunuðu fram og skoruðu – en um sekúndu of seint og sanngjarnt jafntefli var staðreynd. Atli Már Báruson var öflugastur Haukamanna með 10 mörk, Daníel

Ingi Ingason skoraði 8 og aðrir minna. Grétar Ari Guðjónsson var öflugur í marki Hauka, varði um 16 skot. Hjá FH var það fyrirliðinn Ásbjörn Friðriksson og Jóhann Birgir Ingvarsson sem skoruðu mest, 9 mörk hvor og skoraði Jóhann Birgir síðustu 4 mörk FH. Birgir Már Birgisson skoraði 5 og aðrir minna. Markmenn FH vörðu aðeins um 7 skot og munar um minna.

Á morgun, föstudaginn 21. september á alþjóðlega friðardeginum verður óvenjuleg friðarstund í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, þar sem skáldið og leikkonan Eyrún Ósk Jónsdóttir mun standa fyrir því sem hún kallar ljóðahugleiðslu. Þetta er ljóðagjörningur í leikstjórn Hildar Kristínar Thorstensen en tónlistarmaðurinn og tónskáldið Viktor Aron Bragason hefur samið kyrrðar og hugleiðslu-tónlist fyrir verkið. Viktor hefur áður samið tónlist fyrir leikhús, stuttmynd og dansverk, auk þess að semja fyrir hljómsveit sína Beware the Blue Sky. Ljóðin eru eftir flytjandann Eyrúnu Ósk og fjalla öll um frið og kærleika. Eyrún hefur sent frá sér fjölmargar bækur og hlaut m.a. bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2016 og nýjasta ljóðabók hennar kemur út hjá Bjarti á næstu dögum. Leikstjórinn, Hildur Kristín er nýkomin heim úr leiklistarnámi í París, en þetta er hennar fyrsta leikstjórnarverkefni eftir nám. ,,Þetta er fyrsta verkefnið sem ég leikstýri eftir að ég kem heim, en ég var í leiklistarskóla í París og kom heim nú í sumar,“ segir Hildur Kristín leikstjóri verksins. ,,Það var gaman að demba sér

Hildur Kristín og Eyrún Ósk. beint í þetta áhugaverða verkefni. Gjörningurinn er mjög fallegur og heillandi og nýtur sín vel í þessu dásamlega rými sem Fríkirkjan er. Ég hvet fólk eindregið til að koma og upplifa þann boðskap og fegurð sem Eyrún Ósk Jónsdóttir kemur til skila í fallegum ljóðskap sínum og tónlistin hjá Viktori gerir upplifunina alveg töfrandi en hún rímar mjög vel við ljóðin og flutninginn,“ bætir Hildur Kristín við. ,,Ég fékk hugmyndina þegar ég fór að hugsa um hvað við getum oft verið

hrædd við væmnina, og orð eins og friður, kærleikur og góðmennska þykja næstum hallærisleg í dag. Sem rithöfundur er maður iðulega að passa sig á að vera ekki of væminn, og reyna að vera ögrandi og djarfur. Ég velti fyrir mér, þótt það hljómi kannski eins og þversögn, að kannski sé bara fátt meira ögrandi og krassandi í dag en einmitt umræða um frið, ást og kærleika. Og að það væri gaman að skora á þennan ótta við allt sem getur talist væmið og einlægt. Af hverju tengjum við t.d. hugmyndir um frið og kærleika við heimsku og barnalega heimsmynd? Í heimi þar sem normalisering á haturs­ orðræðu og óttaáróðri fer vaxandi held ég að það sé einmitt þörf á að ögra með því að tala skammlaust fyrir friði, ást og kærleika,“ segir Eyrún Ósk höfundur og flytjandi verksins. ,,Okkur fannst svo viðeigandi að vera með atburðinn á alþjóðlega friðardaginn og svo á Eyrún líka afmæli þennan dag svo það er um að gera að gefa henni það í afmælisgjöf að koma og taka þátt í þessari ,,kærleiks-tilraun“ með okkur,“ segir Hildur að lokum og hlær. Viðburðurinn hefst kl. 20 á morgun föstudag og tekur tæpan klukkutíma í flutningi. Frítt er inn og allir velkomnir.

Ljósm.: Guðni Gíslason

Ljóða-hugleiðsla í Fríkirkjunni á alþjóða friðardeginum

Grétar Ari Guðjónsson varði 16 skot í marki Hauka og skoraði eitt.

Haukar stein­ lágu fyrir KA FH vann Fram

Í annarri umferð Íslandsmóts karla í handknattleik tók FH á móti Fram og vann örugglega 29-27 eftir að hafa verið 16-13 yfir í hálfleik. Haukar gerðu hins vegar ekki góða ferð til Akureyrar er þeir mættu heimamönnum í KA. KA menn hreinlega völtuðu yfir Haukana, voru yfir 13-9 í hálfleik og sigruðu svo með 9 marka mun, 31-20. KA err spáð neðsta sætinu í deildinni en Haukum er spáð öðru sætinu.


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

www.fjardarfrettir.is

*ALLAR STÓRAR PIZZUR AF MATSEÐLI EF ÞÚ SÆKIR, VIKUNA 17.–23. SEPT. 2018 PÖNNUPIZZA: 1.590 KR.

EIN VIKA. EITT VERÐ.* DOMINOS.IS

SÍMI 58 12345

DOMINO’S APP

5


6 www.fjardarfrettir.is

SMÁAUGLÝSINGAR þjónusta Bílaþrif. Kem og sæki. Þvottur og bón verndar bílinn. Úrvals efni. Djúphreinsun. Hagstætt verð. Uppl. í síma 845 21 00. Tek að mér að færa yfir á (vídeó, slide, ljósmyndir) DVD diska eða flakkara. Sýnishorn á siggileifa.123.is sími 8637265 siggil@simnet.is, Sigurður Þorleifsson. Garðsláttur í einum grænum. Tek að mér garðslátt í smærri og stærri görðum. Hagstætt verð. Geri tilboð. Uppl. í s. 845 21 00.

smáauglýsingar

fjardarfrettir@fjardarfrettir.is sími 565 3066 Verð 1.200 kr. m.v. hver 200 slög. Myndbirting 1.200 kr. Tapað-fundið og Gefins: FRÍTT

www.fjardarfrettir.is

Tónleikar í Hafnarborg Á sunnudaginn kl. 20, kemur hóp­ urinn Stirni Ensemble kemur fram á tónleikunum í tónleikaröðinni Hjóðön. Hópinn skipa Björk Níelsdóttir, sópran, Grímur Helgason, klarínettu­ leikari, Hafdís Vigfúsdóttir, flautu­ leikari og Svanur Vilbergsson, gítar­ leikari.

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

Náttúruhljóð í nýjum búningi tengd við þjóðlög Ungt hafnfirskt og þýskt tónlistarfólk vinnur saman að spennandi verkefni Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og hljómsveitin Amandus frá vinabæ Hafnarfjarðar, Cuxhaven í Þýskalandi, eru þátttakendur í Erasmus­ verkefninu „Náttúruhljóð í nýjum búningi tengd við þjóðlög“. Hljómsveitirnar hittust fyrst vorið 2016 þegar Amandus hljómsveitin kom í heimsókn til Hafnarfjarðar. Það vakti mikla hrifningu allra, jafnt þátttakenda og áheyrenda að hljómsveitirnar mynd­ uðu fullkomna heild saman þar sem öll blásturs- og strengjahljóðfæri voru til staðar þegar hljómsveitirnar tvær sam­ ein­uðu krafta sína. Sú hugmynd kom þá upp hjá ungmennunum að gera eitthvað meira saman. Verkefnið sem við vinnum að byggir á því að velja þjóðlög frá Íslandi og Þýskalandi sem tengjast veðurfari og náttúru og útsetja þau fyrir hljómsveitirnar. Hljómsveitirnar unnu saman að fyrri hluta þessa Erasmusverkefni síðastliðið haust í Cuxhaven, sem byggt er á þessum hugmyndum og var í fram­ haldinu ákveðið að halda samstarfs­ verkefninu áfram á Íslandi og hafa

hljóm­sveitirnar æft stíft saman síðustu vikuna. Verkefni þátttakenda er m.a. að fara út og hlusta á og skynja náttúruhljóð af ýmsum toga og þá sérstaklega hljóðin í fjörunni, veðrinu og sjávarhljóðin en bæirnir Cuxhaven og Hafnarfjörður liggja báðir við sjó. Þátttakendum er skipt í hópa og hver hópur fær það verk­efni að endurvekja þessi hljóð á óhefð­ bundinn á hátt með allskyns effekt­um á hljóðfærin sín. Þau hafa því unnið að því að skapa stórt tónverk sem samanstendur af mörgum þjóðlögum landanna beggja og hljóðheimi nátt­ úrunnar til þess að undirstrika textana og með því myndað einhverskonar hljóðheimstónverk. Einnig hafa þau kynnst sögu og menningu hvors annars með því heimsækja söfn og forna staði og þar með skynjað betur innihald þjóð­laganna. Markmið og langtímaávinningur verk­ efn­ isins er að koma á góðum tengsl­um milli ungmennanna og að þau kynnist hvort öðru í gegnum tónlist og sköpun og að þessi nýi hljóðheimur

Björk, Grímur, Hafdís og Svanur skipa hópinn Stirni Ensemble. Yfirskrift tónleikanna, Romsa, er fengin úr nýju verki Hafdísar Bjarna­ dóttur, tónskálds, sem frumflutt verður á tónleikunum. Einnig verður frumflutt annað verk eftir Hafnfirðinginn Björk Níelsdóttur. Önnur verk sem flutt verða eru einsöngsverk eftir franska tón­ skáldið Georges Aperghis og hina bandarísku Meredith Monk, gítarverk eftir danska tónskáldið Bent Sørensen og kaflar úr gítarverkum Atla Heimis Sveinssonar, Dansar dýrðarinnar. Atli Heimir verður áttræður á föstudaginn 21. september og vill hópurinn fagna stórafmælinu sérstaklega með flutningi á dönsunum.

FRÉTTASKOT Sendu fréttaskot á fjardarfrettir@fjardarfrettir.is

Hljómsveitirnar á æfingu í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

opni þeim leiðir og víkki sjóndeildar­ hring­ inn til nýsköpunar og frekara samstarfs og að þau læri um ólíka menn­ ingu og náttúru hvors annars. Fjöldi þátttakenda er 30 frá hvoru landi og eru ungmennin á aldrinum 13 til 23 ára. Leiðbeinendur eru þrír frá Íslandi og þrír frá Þýskalandi auk eins fylgda­ rmanns með blindum þátttakenda en stjórnandi og hugmyndasmiður þessa Erasmusverkefnis er Ármann Helgason klarínettuleikari og stjórnandi Sinfóníu­ hljómsveitar Tónlistarskóla Hafnar­ fjarðar.

TÓNLEIKAR Í DAG Afrakstur verkefnisins verður svo fluttur á tónleikum í lok heimsóknarinnar í dag, fimmtudag kl. 17.30 í Hásölum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar undir merkjum Erasmus+. Verkefnið hlaut veglegan styrk í flokknum ungmenna­ skipti hjá Erasmus. Allir eru velkomnir á þessa einstöku þjóðlaga- og náttúruhljóðatónleika og er aðgangur ókeypis.


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

www.fjardarfrettir.is

Fræðslufundir um mikilvægi ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA: málþroska ungra barna Ætlaðir foreldrum 6-24 mánaða barna í Hafnarfirði Fræðslu- og frístundaþjónusta Hafn­ ar­ fjarðar, ásamt Bókasafni Hafnar­ fjarðar og heilsugæslunni í Hafnarfirði, stendur fyrir fræðslu fyrir foreldra ungra barna með það að markmiði að auka vitund foreldra um mikilvægi málþroskans. Haldnir verða tíu fræðslu­ fundir í Hafnarfirði um málörvun ungra barna og verða þeir flestir haldnir í grunn­ skólum bæjarins. Foreldrar/forráða­ menn barna á aldrinum 6-24 mánaða eru hvattir til að mæta á fundi í sínu skólahverfi. Ef sá fundartími hentar ekki er frjálst að mæta á fund í öðru skólahverfi. Að undanförnu hefur átt sér stað mikil umræða um að málþroska og

orðaforða íslenskra barna sé að hraka og að það hafi það síðar áhrif á les­ skilning barna og námsforsendur. Fjöl­ margar rannsóknir hafa sýnt að með örvun málþroska er hægt að styrkja undirstöðuþætti læsis og styðja við góðan námsárangur. Þar geta foreldrar gegnt mikilvægu hlutverki og fund­ unum er einmitt ætlað að fræða foreldra og efla þá í foreldrahlutverkinu. Dagskrá funda • Fræðsluerindi um málþroska og málörvun. • Stutt kynning á Bókasafni Hafnar­ fjarðar og þjónustu þess við börn. • Afhending bókagjafar og bókasafnsskírteinis fyrir barnið.

Fundartímar 25. sept. kl. 20 Setbergsskóli 27. sept. kl. 20 Víðistaðaskóli 9. okt. kl. 20 Hvaleyrarskóli 10. okt. kl. 20 Hraunvallaskóli 11. okt. kl. 17 Öldutúnsskóli 18. okt. kl. 17 Lækjarskóli 25. okt. kl. 17 Stekkjarás 31. okt. kl. 20 Hvaleyrarskóli*1 1. nóv. kl. 17 Lækjarskóli*2 1. nóv. kl. 17 Skarðshlíðarskóli *1 Polski interpretacja *2 English interpretation Verkefnið er hluti af læsisstefnu Hafnarfjarðar, „Lestur er lífsins leikur“, og er unnið í nánu samstarfi við Bóka­ safn Hafnarfjarðar og heilsu­ gæslu­ stöðvarnar í Hafnarfirði.

Hönnun & umbrot

hhus@hhus.is | stofnað 1990

Þriðjudaginn 25. september kl. 12.15-12.45

Friðrik Vignir Stefánsson

HANDBOLTI: 21. sept kl. 18, Dalhús Fjölnir - Haukar U, 1. deild karla 21. sept kl. 18.30, Vestmannaeyjar ÍBV U - FH U, 1. deild karla 21. sept kl. 20.30, Framhús Fram U - FH, 1. deild venna 22. sept. kl. 16, Ásvellir Haukar - KA/Þór, úrvalsdeild kvenna 22. sept. kl. 18, Ásvellir Haukar - Akureyri, úrvalsdeild karla 23. sept kl. 19.30, Kaplakriki FH - Grótta, úrvalsdeild karla 26. sept. kl. 19.30, Ásvellir Haukar U - HK, 1. deild karla ÚRSLIT KVENNA: HK - Haukar: 18-27 FH - HK U: 23-28 Fram - Haukar: 19-22

sport@fjardarfrettir.is

Sigruðu Fram 22-19

© 1809 Hönnunarhúsið ehf.

organisti Seltjarnarneskirkju, leikur á bæði orgel kirkjunnar

Verið hjartanlega velkomin – Aðgangur ókeypis

ÚRSLIT KARLA: Víkingur R. - FH: 1-1 Leiknir R. - Haukar: 0-0

Haukakonur eru meistarar meistaranna í handbolta

HÁDEGISTÓNLEIKAR

Kaffisopi eftir tónleika

ÚRSLIT KVENNA: FH - Stjarnan: 1-4 Haukar - Keflavík: 1-6

ÚRSLIT KARLA: FH - Fram: 29-27 KA - Haukar: 31-20 Haukar - FH: 29-29

Hafnarfjarðarkirkja

Flutt verða verk eftir Max Reger, Georg Böhm og Gordon Young.

22. sept. kl. 14, Grindavík Grindavík - FH, úrvalsdeild kvenna 22. sept. kl. 16, Ásvellir Haukar - HK, 1. deild karla 23. sept. kl. 14, Kaplakriki FH - Valur, úrvalsdeild karla

Kvennalið Hauka í handknattleik lék við Fram í keppninni meistaranna þar sem mætast Íslandsmeistarar og bikarmeistarar. Þar sem Fram hampaði báðum titlunum kom það í hlut Hauka að keppa og var leikið í Framhúsinu í Safamýri. Haukarnir voru sterkari allan leikinn, leiddu 12-10 í hálfleik. Í seinni hálfleik náðu Haukar 4 marka forskoti en Fram stúlkur gáfust ekki upp og jöfnuðu 19-19. En Haukar skoruðu síðustu 3 mörkin og lögðu svo Íslands- og bikarmeistarana 22-19. Fengu þær því fyrsta bikar keppnistímabilsins og titilinn meistarar meistaranna. Karen Helga Díönudóttir og María Innes Da Silva Pereira voru markahæstar í liði hauka með 6 mörk hvor, Ragnheiður Sveinsdóttir skoraði 4, Hekla Rún Ámundadóttir 3 en aðrar minna.

Karen Helga Díönudóttir skoraði 6 marka Hauka.

7


8 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018

Flensborgarhlaup í glæsilegu veðri á strandstígnum Elstu keppendurnir voru hjón, 76 og 78 ára gömul en yngsti keppandinn var 10 ára Áttunda Flensborgarhlaupið var haldið á þriðjudaginn í glæsilegu veðri. Vegna vega­ framkvæmda á Kaldárselsvegi var nú hlaupið frá miðbænum eftir Strandstígnum og í átt að Álftanesi. Í hlaupinu takast á bæði vel æfðir hlauparar og lítt eða ekkert æfðir hlauparar og voru keppendur á öllum aldri. Elstur í 10 km hlaupi var 78 ára og sá yngsti 13 ára. Í 5 km hlaupinu var elsti hlauparinn 76 ára og sá yngsti 10 ára. Elstu hlaupararnir voru þau Eysteinn Hafberg (78) sem hljóp 10 km og kona hans Elín Óskarsdóttir Hafberg (76) sem

5 KM HLAUP

1. Hlynur Ólason 2. Hlynur Guðmundsson 3. Grétar Snorrason

Hlynur Ólafsson var fyrstur í 5 km hlaupinu á 17:50 mín­ útum en stutt var á milli efstu þriggja manna. Fyrst kvenna var Verena Schunurbus á 19:19 mínútum. Alls tóku 138 þátt í 5 km hlaupinu. Boðið var upp á 3 km hlaup án tímatöku og var þátttaka þar mjög góð. Þar var keppnis­ áhuginn mismikill og gleðin í fyrirrúmi. Finna má myndir úr hlaupinu á www.fjardarfrettir.is

ÍR Laugaskokk Hlaupahópur FH

Boltinn í beinni og lifandi tónlist allar helgar. Tilvalinn staður fyrir einkasamkvæmi stærri og smærri hópa. Happy Hour alla daga frá kl. 16 til 19 og fleiri flott tilboð á barnum.

Gleðin var í fyrirrúmi hjá hlaupurunum í Flensborgarhlaupinu. 2001 1972 1981

Flatahrauni 5a

Flatahrauni 5a, Hafnarfirði sími 578 0200

00:17:50 00:17:52 00:18:08

10 KM HLAUP

1. Kristján Svanur Eymundsson 1994 Vængir Júpíters 2. Jörundur Frímann Jónasson 1998 VMA 3. Bjarki Freyr Rúnarsson 1994 3SH

00:34:53 00:37:26 00:37:51

hljóp 5 km og hafði 21 fyrir aftan sig þegar hún kom í mark. Fjölmargir nemendur úr Verkmenntaskólanum á Akur­ eyri tóku þátt í hlaupinu. Kristján Svanur Eymunds­ son var lang fyrstur hlaupara í 10 km hlaupinu, kom í mark á 34:53 mínútum. Fyrst kvenna og 6. í heild var Anna Berglind Pálmadóttir á 40:00 mín. Alls tóku 69 þátt í 10 km hlaupinu. Kristján Svanur Eymundsson.

Ljósmyndir: Guðni Gíslason

Hér má sjá elstu hlauparana, hjónin Eystein Hafberg t.v. og Elín Óskarsdóttir Hafberg t.h. en með henni er dóttir þeirra, Rannveig Hafberg skólastjóri.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook