Skip to main content

Fjarðarfréttir 15. sept. 2016 - 5. tbl. 14. árg.

Page 1

www.fjardarposturinn.is

Finndu okkur á

Gleraugnaverslun Fimmtudagur 15. september 2016 | 5. tbl. 14. árg.

Upplag 10.500 eintök.

Strandgötu, Hafnarfirði Sími 555 7060 www.sjonlinan.is

Dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki í Hafnarfirði

FRUM - www.frum.is

www.fjardarfrettir.is öflugur fréttavefur

BÍLAVERKSTÆÐI V A R A H L U T I R •  V I Ð G E R Ð I R

Sími 564 0400 Bílaraf ehf.

Sími 564 0400

www.bilaraf.is

Flatahrauni 25

220 Hafnarfjörður

Glæsilegar gjafavörur

-stöðin

2. hæð

T A X I Fjórðungur Hafnarfjarðar Hafnfirska leigubílastöðin

er skógi vaxinn

520 1212

www.kökulist.is Firði • sími 555 6655

Samkvæmt endurbættri skóg­­lendisvefsjá sem Björn Traustason hefur gert er 24,8% Hafnarfjarðar, utan Krýsu­ víkur skógi, vaxinn en þriðj­ ung­ ur ræktaðra skóga er á

Suðurlandi. Í Hafnarfirði mun­ ar mestu um þekju nátt­úru­legs birkis undir 2 m. Hlutfall ræktaðs skóg í landi Hafnar­ fjarðar undir 400 m er 5% en aðeins fimm sveitarfélög hafa

hærra hlutfall ræktaðra skóga. Ná­ grannar okkar í Garðabæ hafa hæst hlutfall skóglendis af landi sínu eða 31,1% en á eftir okkur kemur skógræktar­ hérað­ið Fljótsdals­hreppur.

Fjarðargötu 17 Sími: 520 2600

Ljósm.: Guðni Gíslason

Treystu mér fyrir veislunni!

Stofnuð 1988

0,3 km² ræktaður skógur yfir 2 m en 4,4 km² undir 2 m á hæð

Opið virka daga kl. 9-17

as@as.is

Sjá nánar um skógarþekjuna á www.fjardarfrettir.is Hafnarfjörður er skógi vaxið sveitarfélag ef marka má þessa mynd.

www.as.is JEPPADEKK

driving emotion

EINFÖLD ÁKVÖRÐUN

VELDU ÖRYGGI

Rúðuvökvi

Nánari upplýsingar

ALAUS

6

R

www.solning.is

mánaða BO

I

R

F

A

ÞÚ PASSAR HANN VIÐ PÖSSUM ÞIG

XT

A

VA

FYRIR ÞIG OG ÞÍNA

RGAN

Hjallahrauni 4, Hafnarfirði

Sími: 565 2121

beggi@solning.is


2 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. kt. 450106-1350 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðni Gíslason Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, Auglýsingar: 565 3066, fjardarfrettir@fjardarfrettir.is Prentun: Ísafoldarprentsmiðja • Dreifing: Íslandspóstur

Sunnudagur 18. september

Sundlaugarmessa í Ásvallalaug kl. 11

ISSN 2298-8858 Vefútgáfa: ISSN 2298-8866

www.fjardarfrettir.is www.facebook.com/fjardarfrettir.is

Að þessu sinni verður sunnudagaskólinn þar.

Hönnunarhúsið ehf., Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði

Lofgjörðarkvöld kl. 20

leiðarinn

Mikill söngur. Gestur: Pétur Erlendsson tónlistarmaður

Sumir safna í kringum sig alls kyns hlutum og drasli og finna til öryggiskenndar og eiga eitt­ hvað. Þetta er þó fölsk öryggis­ kennd því oftast er þetta drasl verðlaust og fólk þarf á endanum að bera kostnað af förgun þess. Það mætti halda að í Hafnafirði finni fyrirtækja­ eigendur til öryggiskenndar við að eiga sem flest bílhræ. Samt er stutt í endurvinnslustöð Furu sem tekur við bílhræjum og greiðir fyrir. Það er sama hvort þetta er í eldri hverfum eða nýjum iðnaðarhverfum, svo virðist sem bílhræin fylgi mönnum hvert sem þeir fara. Af þessu er hinn mesti sóðaskapur sem fólk hefur allt of lengi fengið að komast upp með. Hafnarfjörður á ekki að vera griðarstaður umhverfissóða og auðvitað á það að vera metnaður hvers og eins að hafa snyrtilegt í kringum sig. Það er vonandi að hreinsunarátak eins og Hafnarfjarðarbær stendur núna fyrir á atvinnu­ lóðum veki fólk til umhugsunar og metnaðurinn fari að færast í að hafa snyrtilegt í kringum sig í stað þess að reyna að fyllast öryggistilfinningu með því að safna bílhræjum. Alltof sjaldan sést trjágróður á atvinnulóðum en fyrirtæki eins og Héðinn sýnir og sannar að þrátt fyrir að unnið sé í grófum iðnaði er alveg hægt að hafa snyrtilegt í kringum sig og hafa trjágróður. Því miður duga ekki ekki alltaf hvatningarorð og formælingar og þá er nauðsynlegt að bæjarfélagið geti gripið til meðala sem virka. Fyrirtæki eiga ekki að komast upp með það að setja ljótan blett á sveitarfélagið.

www.uth.is -uth@uth.is

Ólöf s: 898 3075

Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775

Sjá nánar á www.frikirkja.is og á Facebook

Helgi Pétursson tónlistar- og fjölmiðlamaður segir frá Gráa hernum. Fimmtudagur 22. september

Foreldramorgunn kl. 10-12 hefst 29. september kl. 19.

Víðistaðakirkja

www.astjarnarkirkja.is

Tónlistar­ guðsþjónusta kl. 11

Námskeið fyrir hjón og pör

Hönnun og umbrot bækur | blöð | ársskýrslur auglýsingar | skilti | matseðlar ljósmyndir | greinarskrif

Sunnudagur 18. september

Ragnheiður Gröndal

flytur ljúfa og fallega tónlist. Prestur: Sr. Hulda Hrönn Helgadóttir.

Sunnudagaskólinn kl. 11 Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri fer fram í uppi í suðursal.

Biblíuleg íhugun og bæn á mánudögum kl. 17:30

6-9 ára starf á miðvikud. kl. 13:30 10-12 ára starf á miðvikud. kl. 14:30 sími 565 4513 | hhus@hhus.is | stofnað 1990

ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR

Hálfdán s: 898-5765

Kvöldvaka kl. 20

Starf eldri borgara kl. 13:30

Ljósm.: Guðni Gíslason

Frímann s: 897 2468

Sunnudagaskóli kl. 11

Miðvikudagur 21. september

Það var ánægjulegt að bæjaryfirvöld létu ekki undan óskum um að fá að setja íbúðahótel á fyrstu hæð á Norðurbakka 1. Gott deiliskipulag tryggir góðan miðbæ með virkri þjónustu og verslunum og skyndigróðasjónarmið eiga ekki að verða þess valdandi að eyðileggja þau áform sem sett voru. Deiliskipulagi á ekki að vera einfalt að breyta enda er það leikreglur okkar í skipulagsmálum. Guðni Gíslason ritstjóri.

FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA

Sunnudagur 18. september:

Hafnarfjarðarhöfn

www.vidistadakirkja.is


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

3

Engin pólitík í matreiðslubókum Rósu Bætti í bókaflóruna sína með útgáfu á bókinni Hollt nesti - morgunmatur og millimál

Ljósm.: Guðni Gíslason

Rósu Guðbjartsdóttur bæjarfulltrúa er margt meira til lista lagt en pólitíkin. Hún er afbragðs kokkur og hefur skrifað fjölmargar matreiðslubækur. Á föstudaginn var hún með útgáfuhóf í tilefni af útgáfu á bókinni Hollt nesti - morgunmatur og millimál og gaf hún gestum að smakka ýmislegt sem finna mátti í bókinni. Bókin er prýdd fallegum myndum af girnilegum réttunum og það var greinilegt að fólk tók bókinni vel, a.m.k. hafði Rósa nóg að gera við að árita bækur.

Rósa Guðbjartsdóttir

Af öðrum bókum Rósu má nefna Hollar og heillandi súpur, Partírétti og Eldað af lífi og sál. Rósa mun kynna bókina og bjóða upp á smakk úr henni í verslun Eymundsson Strandgötu, frá kl. 17-18 í dag.

Skorað á fyrirtækjaeigendur að taka til Nú í september skorar Hafnarfjarðar­ bær á fyrirtæki í Hafnarfirði að hreinsa nærumhverfi sitt. „Hrein ásýnd heilt yfir hefur áhrif á upplifun viðskiptavina og viðskipti,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Dagana 15.-30. september eru stjórn­ endur og starfsmenn fyrirtækja í Hafnarfirði hvattir til að rýna í sitt nær­ umhverfi og taka sérstaklega til hend­ inni við hreinsun innan lóðar­marka. Gámum verður komið fyrir á þremur stöðum í Hafnarfirði og eru gámar einkum hugsaðir fyrir losun á timbri og járni frá fyrirtækjum á hverju svæði fyrir sig.

Ljósm.: Guðni Gíslason

Hafnarfjarðarbær leggur til gáma undir timbur og málma og hvetur fyrirtæki til að taka til á eigin lóðum

Mörg fyrirtæki hafa ávallt haft snyrtilegt í kringum sig. Gámar verða á svæðinu í tvær vikur til föstudagsins 30. september. Einn er við Bæjarhraun, annar við Gjáhellu og

Tekið var myndarlega til á þessari lóð fyrir ekki löngu en bílhræ og fl. safnast upp.

sá þriðji er við Bátaskýlin við Lónsbraut. Hafnarfjarðarbær vill með þessu stuðla að betri ásýnd iðnaðar­ hverfa.

Starfsfólk fyrirtækja við Kaplahrauni ber litla virðingu fyrir göngustígum.

Örfáir girða draslið sitt af þó bærinn geti sett girðingarkvöð víða.


4 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

Hafnarfjarðarkratar hittast á 100 ára afmæli! „Þetta verður góðra vina fundur, þar sem gamlir og síungir baráttufélagar taka stöðuna; rifja upp gamla tíma og horfa fram á veg,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði og núverandi sendiherra í samtali við Fjarðarfréttir, þegar hann var spurður um tilurð og ástæðu 100 ára afmælis Hafnarfjarðarkrata, sem fram fer í Turninum í Firði á laugardaginn kl. 16. Á samkomunni mun, Ingvar Viktorsson fyrrum bæjarstjóri segja sögur úr baráttunni, Steinunn Þorsteins­ dóttir sagnfræðingur fara yfir bauta­ steina í baráttu jafnaðarmanna, Jóna Ósk Guðjónsdóttir fyrrum forseti bæjar­­stjórnar ræða konur og krata og Guðmundur Árni ræða áhrif jafnaðar­ manna á líf og störf fólks í Hafnarfirði í gegnu tíðina. Þá munu þær söngkonur, Jóhanna Linnet og Ingveldur Guðrún Ólafsdóttir taka lagið. Þetta allt undir stjórn Gunn­ ars Svavarsson fyrrum formanns bæjar­ ráðs í Hafnarfirði. Eftir þessa dagskrá verður samvera og boðið upp á veitingar. Guðmundur Árni var spurður að því hvort þetta stórskotalið myndi ekki nota tækifærið og setja saman framboðslista fyrir næstu kosningar! „Ja, það er nú ekki beint á dagskránni, en þú segir

Efstu 6 á lista Alþýðuflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1986 þar sem flokkurinn fékk 5 menn kjörna. F.v.: Tryggvi Harðarson, Guðmundur Árni Stefánsson, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Ingvar Viktorsson, Valgerður Guðmundsdóttir og Erlingur Kristensson. nokkuð,“ svara hann hlæjandi. „En í alvöru talað, þá erum við fyrst og síðast að minnast merkra tímamóta; 100 ára afmælis Alþýðuflokksins á Íslandi, þar sem Hafnarfjörður var ævinlega eitt af sterkustu vígum flokksins, enda oft kallaður rauði bærinn, sem endur­ speglaði þá staðreynd að Alþýðu­

flokkurinn var um áratugaskeið við stjórn í Hafnarfirði.“ „Allir góðir jafnaðarmenn eru velkomnir á næsta laugardag,“ sagði Guðmundur Árni að lyktum við ritstjóra Fjarðarfrétta.

Öldunga­ráð vill laun Öldungaráð Hafnarfjarðar fer þess á leit við yfirvöld að tekin verði með í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár laun til stjórnar Öldungaráðs fyrir fundarsetu sem nemi fjórum fundum á ári. Auk þess verði veitt fé til rástöfunar eftir þörfum svo ráðið hafi svigrúm til að auka þekkingu sína og til sérstakra verkefna sem tæki til málefna eldri borgara. Væri stjórn ráðsins sýnd virð­ ing með því. Ráðið á að vera samkvæmt hug­ mynda­ fræðinni ráðgefandi og virkur þátttakandi í allri stefnumörkum um málefni eldri borgara. Stjórn ráðsins óskar einnig eftir að farið verði hið fyrsta í endurskoðun á reglum um ráðið sem settar voru 2006 og átti að endurskoða 2010.

www.facebook.com/ fjardarfrettir Smelltu á LÍKAR VIÐ

Einkastæði notuð á meðan bílastæði við Kaplakrika eru full af drasli Nágrannar þreyttir á að þeir sem heimsæki Kaplakrika leggi í einkastæði í nágrenninu Þegar FH fékk deiliskipulagi breytt á Kaplakrika til að heimla meira byggingarmagn á lóðinni var ljóst að bílastæðum myndi fækka. Jafnvel þó veitt væri heimild fyrir allt að 5 hæða kennslu- og fjölnotahúsi austan við knattspyrnuvöllinn. Var þá rætt um að félagið þyrfti að semja við fyrirtæki í nágrenninu en engin tímamörk voru á því og ekki er vitað til þess að slíkt samkomulag hafi verið gert við nágranna. Eru þeir sem eru með rekstur á sama tíma og leikir fara fram ósáttir við að hafa ekki eigin bílastæði laus fyrir sína

Þessi lokaði af fjölmörg stæði

Alls staðar var lagt viðskiptavini en gestir Kaplakrika leggja jafnvel á einkastæðum áður en stæði á Kaplakrika fyllast.

Í dag eru fjölmörg bílastæði teppt vegna geymlu á ýmsu byggingarhlutum

Stæði merkt fötluðum

og drasli og því eru nothæf stæði ekki eins mörg og kveðið er á um í skipulagi.


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

5

Ný tannlæknastofa opnar í Hafnarfirði Í fyrsta sinn sem ungur tannlæknir opnar eigin tannlæknastofu síðan 2008 Róbert Gerald tannlæknir opnaði á dögunum tannlæknastofuna Bæjarbros í Bæjarhrauni, Hafnarfirði í samvinnu við tannréttingarsérfræðingin Þóri Schiöth. Það er í fyrsta sinn sem ungur tannlæknir opnar eigin tannlæknastofu síðan haustið 2008.

Róbert segir að viðtökurnar hafi verið góðar og framkvæmdir gengu vel. Róbert býður upp á alla almenna tann­ læknaþjónustu, barnatannlækningar, tann­­hvíttun og tannsmíði. Ef viðkom­ andi þarf á ráðgjöf varðandi tann­

Mikilvægt er að börn komi reglulega til eftirlits hjá tannlækni. réttingar er sérfræðingur í tannréttingum einu herbergi frá. Róbert notar nýjustu tækni í röntgen­ myndatöku og rótfyllingum. Hjá Bæjar­­ brosi verður sjúklingum boðið

Ával l t

Róbert Gerald ásamt syni sínum í nýju tannlæknastofunni á Bæjarhrauni 2.

upp á að fá heyrnartól og sjónvarps­gler­ augu meðan á lengri heimsóknum stendur. Tannlæknastofan er opin alla virka daga frá 9 til 17 og er síminn 565 9020.

Ával l t l júft og gott Upp á gamla mátann vínarbrauðskambur

eplavínarbrauð

steinbakað franskbrauð

normalbrauð

Verið in v e l k om

Strandgötu 49 - Hafnarfirði - Sími 555 4046


6 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

Erla Sigurlaug sigraði í Tour of Reykjavík Var búin að sætta sig við annað sætið en mundi þá eftir móttóinu sínu „ALLTAF að taka endasprett“ Laugardalnum. Þetta er mjög krefjandi leið og tóku 83 þátt, þar af 13 konur og var Hafnfirðingurinn Erla Sigurlaug Sigurðardóttir ein þeirra. Hún hefur verið mjög sigursæl í hjólreiðakeppnum á árinu, hún er Íslandsmeistari í

Ljósm.: Tour of Reykjavík

Erla Sigurlaug Sigurðardóttir og Tobias Mørch Kongstad, sigurvegarar í 110 km keppninni.

fjallahjólreiðum og maraþonfjalla­hjól­ reiðum og sigraði í RB Classic, KIA Gullhringnum og Bláalóns þrautinnni í sumar. Þessi keppni var engin undan­ tekning fyrir hana. Loka­spretturinn var æsispennandi og mun­ aði aðeins sekúndubroti á Erlu og liðs­ félaga hennar úr Tindi, Ágústu Eddu Björns­ dóttur. En látum Erlu lýsa lokametr­ unum: „Ég var eiginlega alveg búin,“ segir Erla Sigurlaug. „Var að ströggla þegar 30 km voru eftir, óglatt og átti ekki mikið power inni. Ég vann samt mína vinnu með Ágústu og saman fórum við í gegnum þetta á race hraða, þrátt fyrir að vita að við værum langt á undan næsta hópi. Svo byrjar Ágústa endasprettinn á Engjateignum og náði strax 6-10 m forskoti en ég elti eins og ég gat. Svo kom hringtorgið og ég var búin að sætta mig við annað sætið, enda heiður að fá að tapa fyrir henni eftir svona æðsilega samvinnu og keppni. Á sekúndubroti fóru alls kyns hugsanir í gegnum hausinn á mér, alveg búin, illt í baki, flökurt og fegin að þetta væri búið. Ég sá hana hverfa... en svo gaaaat ég bara ekki látið þetta gerast að sjálfu sér og minnti mig á mottóið mitt:

ALLTAF að taka endasprett. Sem ég geri, alltaf - líka þótt enginn sé nálægt mér! Svo keppnisskapið í mér píndi mig í þetta og það tókst í þetta sinn.“ Erla Sigurlaug lauk keppni á 3,38:52.467 klst. Í karlaflokki sigraði Tobias Mørch Kongstad frá Danmörku sem kom í mark á 2,49:10.902 klst., 5 mínútum á undan næsta manni, liðsfélaga sínum Magnus Bak Klaris í Amager cykle ring en Ingvar Ómarsson var fyrstur Íslendinga tæpum 43 sekúndum á eftir öðrum manni.

ÞÓRDÍS JÓNA ÖNNUR Í 40 KM KEPPNINNI Í 40 km keppninni tóku 310 hjólreiðamenn þátt, þar af 86 konur. Hjólaðir voru þrír hringir frá Laugardal, m.a. um Bústaðaveg, Hringbraut, miðbæinn og Sæbrautina til baka Þar sigraði Inga María Ottósdóttir á 1,03:17.149 klst. en í öðru sæti var Hafnfirðingurinn Þórdís Jóna Hrafn­ kelsdóttir á 1,03:22.174 klst. en hún er í Hjólreiðafélaginu Bjarti. Í karlaflokki sigraði Guðmundur Sveinsson úr HFR á 55,49.411 mín­ útum.

Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, Inga María Ottósdóttir og Eva Margrét Ævarsdóttir, efstu þrjár í 40 km keppninni.

Neitað um íbúðir á jarðhæð í miðbænum Þrýst á bæjaryfirvöld að fá að breyta verslunarrýmum í hótelíbúðir gegn skýrum ákvæðum í skipulagi ir skilgreinginu á hóteli eða gisti­heimili en þar eru m.a. ákvæði um gestamóttöku auk þess sem íbúðir ætlaðar til útleigu til gesta falli ekki undir húsaleigulög. Ákvæði um verslun og þjónustu á fyrstu hæð í miðbænum eru sett til að tryggja að miðbærinn geti þróast sem verslunar- og þjónustukjarni. Mun strangari ákvæði gildi oft um miðbæi í bæjum og borgum til að tryggja lifandi starfsemi og að miðbæir þróist í þá átt sem almennur vilji er fyrir. Því eru settar hindranir á það að hver og einn eigandi geti nýtt húsnæði í það sem honum þykir henta hverju sinni eða geti

fengið sem mestan arð af. Ljóst er að með fjölgun ferðamanna er aukin ásókn í að breyta bæði íbúðarhúsnæði og skrifstofu- og verslunarrýmum í ýmis

konar gistiað­stöðu sem getur oft haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þróun viðkomandi svæðis.

Sjálfstæðisflokkurinn

Í skilmálum deiliskipulags fyrir miðbæ Hafnarfjarðar er ákvæði um að á jarðhæð bygginga skuli vera verslun og þjónusta. Á þetta m.a. við um Norðurbakka 1 en þar hefur eigandi hálfrar fyrstu hæðar ítrekað sótt um að fá að setja þar 4 hótelíbúðir. Skipulags- og byggingarráð hafnaði erindinu 8. mars sl. Taldi umsækjandi afgreiðsluna ranga og ólögmæta og segir að hótelíbúðir falli undir landnotk­ unina verslun og þjónusta. Þessu hafnar ráðið 9. september sl. með rökum skipulagsstjóra bæjarins sem vísar í að hótelíbúðir falli ekki und­

Að bryggju

Ljósm.: Tour of Reykjavík

Hjólreiðakeppnin Tour of Reykjavík var haldin sl. sunnudag. Keppt var í þremur vegalengdum en lengsta keppnin var 110 km þar sem hjóluð var Nesjavallaleið, Grafningsleið og Mosfellsheiðin til baka og endað í


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

Garðbæingar vilja loka við Herjólfsbraut Garðbæingar í Boða- og Naustahlein þurfa að taka á sig 2,5 km krók eða fara í gegnum Hafnarfjörð Garðbær hefur auglýst tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að rjúfa tengingu gamla Álftanes­ vegar við Herjólfsbraut til austurs. Þá þurfa íbúar Garðabæjar sem búa við Naustahlein og Boðahlein að taka á sig 2,5 km auka krók út á Álftanes og til baka aftur eftir nýja Álftanesveginum að hringtorgi sem er á Álftanesveginum þar sem nýji vegurinn tengist við þann gamla.

STYTTRA AÐ FARA Í GEGNUM HAFNARFJÖRÐ Það verður því styttra fyrir Garðbæinga að fara í gegnum Norður­ bæinn í Hafnarfirði til að flytja sig um set í eigin sveitarfélagi. Þetta mun einnig hafa mikil áhrif á akstur til og frá Hrafnistu og kemur örugglega til með að auka umferð um Skjólvang.

Til vinstri má sjá Herjólfsbraut/Herjólfsgötu og ekki verður hægt að beygja til hægri til að komast að hringtorginu, firðiverður 156,5x200 heldur að aka 3,2 km leið út á Álftanes og til baka aftur eftir nýja Álftanesveginum.

EKKERT SAMRÁÐ VIÐ YFIRVÖLD Í HAFNARFIRÐI

Láttu mæla í þér sjónina

Þessum fyrirætlunum hefur verið mótmælt af yfirvöldum í Hafnarfirði enda var ekkert samráð við skipu­ lagsyfirvöld í Hafnarfirði um þessa breytingu.

Tímapantanir í síma 555 4789 Handbolti karla

Ljósm.: Guðni Gíslason

Fyrri leikur Hauka og sænska félags­ ins Alingsås HK verður á Ásvöllum laugardaginn 8. október kl. 16 og því öruggara fyrir handboltaáhugamenn að taka tímann frá. Liðin mæt­ast í annarri umferð Evrópu­keppn­innar í handbolta. Haukar lögðu AC Diomidis Argous frá Grikklandi í báðum leikjum liðanna í Grikklandi 3. og 4. september, 33-26 og 28-20. Svíar hafa þegar skipulagt ferð til Íslands fyrir sitt stuðningsfólk. Síðari leikurinn verður í Svíþjóð 16. október.

PIPAR\TBWA • SÍA

Evrópu­ leikur á Ásvöllum 8. október

MJÓDDIN S: 587 2123

FJÖRÐUR S: 555 4789

SELFOSS S:482 3949

Gleraugnaverslunin þín

7


8 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

Áhersla lögð á aðlaðandi umhverfi og jákvæða upplifun áhersla lögð á þjálfun, öryggi og heilsu starfsfólks. Við vinnum af ábyrgð og höfum þannig jákvæð áhrif á umhverfið. Við þekkjum þau víðtæku og jákvæðu

áhrif sem Krónan getur haft á sam­ félagið og því ætlum við að standa okkur og vanda okkur vel,“ segir Ósk Heiða.

Ljósm.: Guðni Gíslason

Krónan er eitt þeirra fyrirtækja sem nú í ágúst hlaut viðurkenningu Hafnarfjarðarbæjar fyrir snyrtileika, góða umgengni og faglegt framlag til umhverfismála. „Við hjá Krónunni erum þakklát og stolt af þessari viðurkenningu. Allir aðilar sem komu að byggingu Krón­ unnar á Flatahrauni lögðust á eitt við það að gera verslunina og umhverfi hennar sem snyrtilegast og aðgengi­ legast fyrir viðskiptavini og starfsmenn. Við hönnun og framkvæmd var leitað leiða til þess að vinna með hagkvæmar lausnir og skapa umhverfi sem styður við jákvæða upplifun viðskiptavinarins, allt frá lokuðum kælum til að minnka orkusóun, yfir í frágang á lóð,“ segir Ósk Heiða Sveinsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar en Krónan býður, fyrst verslana í Hafnarfirði, upp á græn bílastæði með hleðslustaurum. Verslun Krónunnar á Flatahrauni þykir björt og rúmgóð og framboð af ferskvöru og hollri vöru til fyrirmyndar. „Við leggjum áherslu á að stunda heilbrigða viðskiptahætti í samvinnu við birgja með hollustu í fyrirrúmi og viljum að Krónan sé fyrirmyndarvinnu­ staður, þar sem launajafnrétti ríkir og

Áhersla á minni mengun og sóun verðmæta.

Stílhreint og fallegt yfirbragð vöru og umhverfis Fjölskyldufyrirtækið Te & Kaffi byrjaði sem lítil verslun með kaffi og te árið 1984 og er nú ört stækkandi fyrir­ tæki með um 200 manns í vinnu við framleiðslu, markaðssetningu og sölu. Fyrirtækið hefur til fjölda ára verið með framleiðslu sína og vöruhús við Stapa­ hraun í Hafnarfirði og ætti öllum þeim sem leið eiga um svæðið að vera nokkuð ljóst að umhverfismál og ásýnd eru fyrirtækinu mjög hugleikin. Þessi hugs­un endurspeglast þvert í gegnum fyrirtækið enda bera kaffihús og framleiðsluvörur Te & Kaffi vott um það stílhreina og fallega yfirbragð sem starfsmenn og stjórnendur vilja að haft sé að leiðarljósi í öllum rekstrinum. „Við leggjum áherslu á stílhreint og fallegt yfirbragð í öllum okkar verk­ efnum, aðgerðum og framkvæmd­um. Í umsvifamiklum rekstri okkur þá höfum við lagt ofuráherslu á góða umgengni og flokkun á sorpi og öðrum úrgangi. Iðnaðarhverfum fylgir því miður oft slæm umgengni og hugsunin oft sú að eðli starfseminnar sé einfaldlega þann­ ig að ekki sé hægt að hafa hreint og fínt í kringum sig. Þessu erum við ekki sam­ mála. Allir sem vilja hafa fínt í kringum sig geta haft fínt í kringum sig og það óháð eðli starfseminnar,“ segir Guð­

Meðal daglegra áhersluatriða Krón­ unnar eru minni mengun og sóun verð­ mæta, endurvinnsla, endurnýting, orku­ sparnaður og verkefni tengd minnk­­un matarsóunar. Þannig er m.a. skilgreint hvað og hvernig flokka eigi úrgang til endurvinnslu, hann greindur og mældur og upplýsingar sýnilegar starfsmönnum. Allir starfsmenn gegna stóru hlutverki og eru ábyrgir fyrir verkefnum tengdum umhverfismálum.

mundur Halldórsson, fram­kvæmda­­­ stjóri Te & Kaffi. Fyrirtækið hefur í umhverfisstefnu sinni lagt drög að innleiðingu á ISO 14001 umhverfis­stjórnarstaðli á kaffi­ húsum og í fram­ leiðsludeildum og unnið að sífellt viða­meiri flokkun sorps í öllum deildum og kaffihúsum. Eitt

verkefna snýr beint að snyrtileika um­hverfis reksturs á Stapa­hrauni þar sem sorpflokkun hefur verið aukin ásamt því að trjám hefur verið plantað og svæði, sem fólk nýtti áður til losunar á rusli og bílhræum, þökulagt. „Við teljum það samfélagslega skyldu okkar að huga vel að umhverfis­

Verið er að stækka framleiðslu- og lagerhúsnæði Te & Kaffi um 500 fermetra.

málum og viðbrögðin sem við höfum fengið hvetja okkur áfram til enn stærri að­gerða á þessu sviði. Við erum afskap­ lega stolt af viðurkenningu sem Hafnar­ fjarðarbær veitti fyrirtækinu á dögunum um snyrtilegt umhverfi á athafnasvæði og fögnum því að eftir framlagi okkar sé tekið. En verkefnið um hreinsun Stapa­hrauns lýkur þó ekki nema með sam­eiginlegu átaki allra þeirra fyrir­ tækja sem eru með starfssemi í götunni ásamt dyggum stuðningi bæjar­ yfir­ valda,“ segir Guðmundur að lokum.


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

9

Snyrtimennska er góð fjárfesting Þegar Héðinn flutti starfsemi sína í Gjáhelluna í árslok 2008 var tekin sú ákvörðun að vanda sem best til umhirðu og stuðla að snyrtimennsku á lóð fyrirtækisins. Það átti ekki bara við um framhliðina sem snýr að viðskipta­ vinum, heldur ekki síður baklóðina. „Lóðin er 30 þúsund fermetrar og mikilvægt að hafa þar allt í röð og reglu til að koma verkefnum og búnaði fyrir á aðgengilegan hátt. Það sparar tíma og eykur skilvirkni og yfirsýn og dregur úr sóun. Segja má að snyrti­ mennskan sé mjög góð fjárfesting,“ segir Ragnar Sverrisson framkvæmda­ stjóri Héðins. Fyrir mörgum eru alls konar málmhlutir og tækjabúnaður kannski ekkert augnayndi en með góðu skipulagi má gera gott úr því. Að framanverðu er þó ekkert slíkt að sjá og þar er reynt eftir fremsta megni að fegra umhverfið með góðri umgengni og gróðri. Ragnar segir að miklu hafi skipt að Ask arkitektar, sem hönnuðu húsið við Gjáhellu, hafi lagt áherslu á landslagið og umhverfi þess. Grasflatir með trjám eru við húsið að framanverðu og fallegur trjálundur við eitt hornið. Einnig er lagt upp úr fallegri aðkeyrslu. „En svona stór lóð verður ekki snyrtileg af sjálfu sér og við hjá Héðni erum svo heppin að einn starfsmanna

fyrirtækisins, Jón Magnús Kristjánsson, sinnir því verkefni af mikilli alúð meðfram öðrum störfum hjá fyrir­ tækinu.“ Ragnar segir það enga spurningu að fallegt, skipulagt og snyrtilegt umhverfi á þessari stóru iðnaðarlóð hafi mjög jákvæð áhrif.

„Þetta smitar út til starfsmanna. Það er auðvelt að detta í það að skilja tæki og búnað eftir sig hvar sem er á lóðinni, en á endanum yrði það alveg skelfilegt. Þess vegna skiptir svo miklu máli að hafa góða reglu á hlutunum. Og þetta hefur líka áhrif á umgengnina innanhúss. Gagn­ vart viðskiptavinum

skiptir auðvitað miklu máli hvaða mynd fyrirtæki gefa af sér. Ef það er allt í drasli og vanhirðu, hvers á viðskipta­ vinurinn þá að vænta? Það segir sig sjálft að snyrtimennska, umhirða og virðing fyrir umhverfinu skilar sér margfalt til baka,“ segir Ragnar.

Snyrtimennska, umhirða og virðing fyrir umhverfinu skilar sér margfalt til baka.

15.-30. SE PTEMBER

HREINSU N FYRIRTÆ KJALÓÐ HAFNARF JÖRÐUR

ÁSKORUN TIL FYRIRTÆKJA

Hrein ásýnd hefur áhrif á upplifun og viðskipti

Hreinsunarátak dagana 15. - 30. september 2016

Nýtum okkur þjónustuna - gámar fyrir timbur og járn Gámar verða á þremur stöðum í Hafnarfirði frá 15. - 30. september fyrir losun á timbri og járni frá fyrirtækjum; við Bæjarhraun, bátaskýlin á Lónsbraut og við Gjáhellu. Allt annað rusl þarf að berast beint á endurvinnslustöðvar. Framlag allra fyrirtækja skiptir máli! Nánar á hafnarfjordur.is

A


10 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

hafnfirski fréttavefurinn

www.fjardarfrettir.is

Takk fyrir frábærar móttökur! Vissir þú að 10.000 manns skoðuðu fréttina um kjallarann sem fannst við Bókasafnið? Þinn fréttavefur

Vertu með á Facebook

Ekki hika við að senda okkur ábendingar um fréttir og fréttaskot. Með virkri þátttöku bæjarbúa gerum við fréttavefinn að sönnum hafnfirskum fréttavef.

Fjarðarfréttir er að sjálfsögðu á Facebook. Finndu okkur þar og ekki hika við að smella á LIKE og þú fylgist með þegar nýju efni er bætt á vefinn.

Gömlu myndirnar

Ertu góður penni?

Við tökum gjarnan við góðum gömlum myndum til birtingar. Sendu þær á fjardarfrettir@fjardarfrettir.is með upplýsingum um myndina og ljósmyndara.

Við leitum að góðum pistlahöfundum sem vantar stað fyrir góða pistla. Við birtum og komum þeim á framfæri.

FJARÐAR fréttir

Útgefandi: Hönnunarhúsið ehf. Bæjarhrauni 2, sími 565 4513, 896 4613 | fjardarfrettir@fjardarfrettir.is


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

11

Hringtorgið Hlíðartorg sprungið Umhverfis- og framkvæmdaráð telur ljósstýrt hringtorg ekki ásættanlega lausn

Reykjanesbrautin er þjóðvegur sem liggur í gegnum Hafnarfjörð og umferðar­þungi á brautinni hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum eins og umferðarmælingar sína. Er Hlíðartorg, hringtorgið við Lækjargötu og Hlíðar­ berg komið að þolmörkum en það er hannað fyrir 37.000 bíla á sólarhring. Er svo komið að það getur ekki tekið við fleiri bílum nema með töluverðum endurbótum.

Miðað við fyrirliggjandi greiningar er ljóst að nauðsynlegt er að úrbætur á Reykjanesbraut fái forgag.

HUGMYND UM LJÓSASTÝRT HRINGTORG

HEFÐU MISLÆG GATNAMÓT KOMIÐ HEFÐUM VIÐ EKKI HAFNAÐ ÞEIRRI LEIÐ? Þegar Vegagerðin vildi setja mislæg gatnamót á Reykjanesbraut á móts við Lækjargötu stóð þáverandi bæjarstjórn gegn þeim hugmyndum en þá átti einnig að setja Reykjanesbrautina í stokk. Strax árið 2002 voru komnar hugmyndir hjá Hafnarfjarðarbæ um að fá áætlunum um gerð mislægra gatnamóta breytt en bærinn taldi að ekki væri tryggt fjármagn til að breikka Reykjanesbraut og að gera þessi mislægu gatnamót. Vegagerðin hafði hins vegar sett sem skilyrði að öll gatnamót á Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð yrðu mislæg.

Rauðu línurnar sýna hugmynd að ljósastýringu en hringtorgið er talið allt of lítið til að hægt sé að ná viðunandi lausn. Í framhaldinu var sett hringtorg sem leysti úr brýnasta vandanum og slys heyrðu næstum sögunni til. Þá kom fram að þetta væri aðeins bráða­birgða­ lausn því umferðarspár segðu að þarna þyrftu að koma mislæg gatnamót. Þess í stað voru sett mislæg gatnamót við Kaldárselsveg en þá var nýbúið að setja þar hringtorg með góðum árangri.

ÓÁSÆTTANLEGT ÁSTAND Skipulags- og byggingarráð fjallaði um hringtorgið á fundi sínum í síðustu viku og telur að nú sé svo komið að erfitt er fyrir íbúa Hafnarfjarðar að komast leiðar sinnar á álagstímum. Hringtorgið við Lækjargötu/Setberg nái ekki að þjóna tilgangi sínum að tryggja eðlilegt flæði umferðar í allar áttir.

Þær lausnir sem kynntar hafa verið með ljósastýringu á hringtorginu eru ekki viðunandi úrbætur fyrir íbúa Hafnarfjarðar að mati umhverfis- og framkvæmdaráðs og leggur ráðið þunga áherslu á að Vegagerðin leggi fram tillögur að varanlegri lausn vegna aukinnar umferðar á hringtorginu. Notkun ljósastýrðra hringtorga er þekkt erlendis en hafa ekki verið notuð hér. Í greiningu á vandandum komu verkfræðistofur með tillögur um ljósastýrð gatnamót þar sem bæði átti að stýra umferð inn í torgið og um torgið. Með því mætti bæta flæðið og afköst hringtorgsins lítillega sem ekki var talið ásættanlegt hjá yfirvöldum í Hafnarfirði. Í apríl fóru 5.006 bílar á klst. síðdegis um torgið og 3.945 árdegis sem segir mikið um álagið á hringtorgið. Til að létta á álaginu var líka lagt til að tvöfalda frárein og beygjuakrein til austurs við Kaplakrika en hringtorgið nær ekki að flytja frá sér nægilega marga bíla úr suðri.

PIPAR\TBWA

•

SÍA

•

163707

Nýbakað brauð, kökur og smurt brauð allan daginn – alla daga.

Við tökum vel á móti þér að Flatahrauni 13 Austurveri • Flatahrauni • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri


12 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

Óvirðing við gangandi og hjólandi Einkaaðilar trassa að ganga frá hjóla- og göngustíg sem var rofinn til að bæta við bílastæðum settur kantsteinn sem ekki er á eldri stæðunum. Nú hjólar enginn eftir stígnum sem hefði getað verið svo góð viðbót í fátæklega flóru hjólreiðastíga í Hafnarfirði. Eðlilegast hefði verið að bílarnir hefðu þurft að fara yfir stíginn í stað þess að lækka hann á 8 stöðum um 15 cm á hverjum stað. Engin ákvæði voru um það hversu lengi rof mætti vera á göngu- og hjólastígnum í samningnum við einkaaðilana.

Ljósm.: Guðni Gíslason

Við Bæjarhraun var fyrir all nokkru gerður göngu- og hjólastígur og var þetta samstarfsverkefni Hafnarfjarðar­ bæjar og Vegagerðarinnar. Var honum m.a. ætlað að þjóna sem hjólaleið fyrir þá mörgu sem nú hjóla í vinnuna. Fljótt kom í ljós að stígurinn var ekki gerður með þarfir notendanna í huga því á sex stöðum á þessari stuttu leið voru innkeyrslur inn á bílastæði og var stígurinn lækkaður þar um nálægt 15 cm á hverjum stað. Myndaðist snarbrött upphækkun sem þar að auki kom á ská á hjólaleiðina og var varasöm í snjó og

Ljósm.: Guðni Gíslason

bleytu. Sást greinilega að hjólandi fólk forðaðist stíginn og hélt sér á götunni. Ekki bætti úr skák þegar tveir nýjum bílastæðavösum var bætt við en það voru eigendur í nærliggjandi húsum sem fengu að setja bílastæði á eigin kostnað. Var stígurinn enn einu sinni rofinn og ný bílastæði gerð, steyptir kantar og bílastæði máluð. En nú er liðinn vel á annan mánuð síðan það var gert og enn er sár í stígnum sem eftir er að malbika. Þar að auki hefur verið

Ljósm.: Guðni Gíslason

Svona hefur þetta staðið óklárað í langan tíma.

Hér er hæðarmismundurinn mikill! Verður þessi stígur örugglega notaður sem víti til varnaðar, „Hafnarfjarðar­ hjólastígur“.

Brúnir eins og þessar eru ekki vinsælar meðal hjólreiðamanna.

Fjölmargir lögðu leið sína á opið hús hjá Sjúkraþjálfaranum sl. fimmtudag en þá gafst gestum kostur á að hlýða á fyrir­ lestra, prófa æfingartæki, spjalla við sjúkraþjálfara og fara í ýmar mæl­ ingar. Hér má sjá þar sem virkni vöðva er mældur og hægt er að sjá árangurinn strax uppi á vegg. Hún Ágústa sem margir þekkja úr Fiskbúðinni á Kirkjuvegi átti ekki í neinum vandræðum með sína vöðva.

Ljósm.: Guðni Gíslason

Kynntust töfrum sjúkraþjálfunar

Sjúkraþjálfarar útskýra hvað línuritið segir okkur.

R atleikurinn FRÍTT ratleikskort

Deildu upplifun þinni úr Ratleiknum á Facebook síðu leiksins!

Ratleijakruðarr HRaafntleikur ar rf Hafna

fjarðar

Sumarið 2016 Sumarið 2016

Hönnunarhúsið ehf.

stendur til 25. sept.!


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

13

Á hringtorgi á stærsta bílkrana bæjarins Glæsilegur glænýr krani DS lausna lipur á götum bæjarins – næst stærsti bílkrani landsins Nýi kraninn er af gerðinni Grove og er með 250 tonna lyftigetu og er því næst stærsti krani landsins. Aðeins einn er stærri, 300 tonna krani af sömu gerð sem kom til landsins árið 2007.

Að sögn Marians Sigurðssonar hjá DS lausnum er fyrirtækið lang stærsta kranafyrirtæki landsins með 12 bílkrana og þar af hafa þrír þeirra verið keyptir á þessu ári. Segir hann næg verkefni vera

fyrir kranana og vinna 19 starfsmenn hjá fyrirtækinu sem hefur aðsetur að Rauðhellu 5 hér í bæ.

Ljósm.: Guðni Gíslason

Hann er engin smásmíði nýjasti krani DS lausna ehf. sem sérhæfir sig í kranalausnum og uppsetningu og niðurtöku á byggingarkrönum.

Tignarlegur kraninn á Flensborgartorgi, gljáfægður og fínn.

Þarftu að selja?

Frítt söluverðmat

Vönduð vinnubrögð og framúrskarandi þjónusta sem skilar þér árangri

FJÖRÐUR

Lækjargötu 34d, Hafnarfirði | 519 5900

Páll B. Guðmundsson

Víglundur Helgason

Löggiltur fasteignasali

nemi í lögg. fasteignasala sími 891 9981, viglundur@remax.is

sími 861 9300 pallb@remax.is


14 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

þjónusta Tölvuaðstoð og viðgerðir Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun. Apple* & Windows. Kem í heimahús. Sími 824 9938 - hjalp@gudnason.is Bílaþrif. Kem og sæki. Tjöru­hreinsun og bón verndar bílinn. Úrvals efni. Djúp­hreins­ un. Hagstætt verð. Uppl. í s. 845 2100. Tek að mér að færa yfir á (vídeó, slide, ljósmyndir) DVD diska eða flakkara. Sýnishorn á siggileifa.123.is sími 8637265 siggil@simnet.is, Sigurður Þorleifsson. Trjáklippingar. Tek að mér trjáklippingu og fl. Hagstætt verð. Geri tilboð. Uppl. í s. 845 2100.

húsnæði óskast Óska eftir skrifstofuaðstöðu til leigu fyrir einn eða að samnýta skrifstofurými með öðrum. Upplýsingar í síma 896 1488.

Til sölu Tvö náttborð, lítill frystiskápur og vatnsryksuga. Upplýsingar í síma 616 6364

smáauglýsingar

fjardarfrettir@fjardarfrettir.is sími 565 3066 Verð 1.200 kr. m.v. hver 200 slög. Myndbirting 1.200 kr. Tapað-fundið og Gefins: FRÍTT

www.fjardarfrettir.is

Forvitnileg sýning í anddyri Bókasafns Hafnarfjarðar Frá alda öðli hafa galdramenn birst í bókmenntum. Í ævintýrum og gömlum þjóðsögum eru þeir oft álitnir vondir. Í seinni tíð hefur birtingarmynd galdramanna breyst. Oftast eru þeir vitrir og menntaðar menn sem veita útvöldum persónum leiðsögn, eins og galdramaðurinn Merlín úr sögunni um Arthúr konung eða Albus Dumbledore úr sögunum um galdrastrákinn Harry Potter. Á Íslandi komu langflest galdramál upp á brennuöldinni (1654-1690). Sögurnar um Galdra-Loft, Sæmund fróða og fleiri eru vel þekktar. Enn þann dag í dag er dulúð galdramanna vinsælt

viðfangsefni í fantasíubókmenntum og bíomyndum fyrir börn og fullorðna. Besta dæmið eru Harry Potter bækurnar sem byrjuðu að koma út árið 1997. Aðdáendur þeirra fengu fyrir stuttu langþráð áframhald sögunnar með leikritinu „Harry Potter and the cursed child“ sem er til útláns á bóka­ safninu. Þeir sem vilja skyggnast inn í töfra­ heim galdramanna og sjá töfra­sprotann hans Harrys ættu að líta inn á bóka­ safninu. Harry Potter.

100 manns spenntir fyrir meistarflokkum FH Handknattleiksdeild FH fer af stað með metnaði Jóhann Sigfússon, aðalþjálfari meistara­ flokks karla og aðstoðarþjálfari meist­ ara­flokks kvenna, liðin tvö til leiks. Um 100 manns þáðu boðið þetta kvöldið, mættu í Krikann og gæddu sér á léttum

Handknattleiksdeild FH hélt kynn­ ingarkvöld fyrir stuðningsmenn félags­ ins í Sjónarhóli, félagsheimili FH í Kaplakrika, á fimmtudagskvöld. Þar var farið yfir veturinn sem framundan er hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Ásgeir Jónsson, formaður, og Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmda­ stjóri, ræddu um starf deildarinnar í vetur almennt og þá kynnti Halldór

Fríar smá­auglýsingar í september! Fjarðarfréttir býður einstaklingum fríar smáauglýsingar í september. Max 150 slög.

Farðu á www.fjardarfrettir.is og smelltu á smáauglýsingar

Starfsmaður óskast

til almennra starfa hjá Rafpóleringu ehf. Fyrirtækið þjónustar Íslenskan iðnað, framleiðslu og fleiri, með efnishreinsun á ryðfríu stáli. Starfsstöð er að Stapahrauni 3b, Hafnarfirði. Áhugasamir sendi töluvpóst á rp@rp.is.

Yfirborðsmeðhöndlun á ryðfríu stáli

rp@rp.is www.rp.is

Ljósm.: Aðsend

SMÁAUGLÝSINGAR

veitingum í boði Muggs, stuðnings­ mannafélags FH. Meistaraflokkar karla og kvenna hófu síðan leik um helgina, og höfðu bæði sigur úr býtum.

Fjölmennt var í Kaplakrika á kynningu handknattleiksdeildarinnar.

MENNING & MANNLÍF Sýningar í Hafnarborg Haustsýning Hafnarborgar 2016, „Tilraun – leir og fleira“ er í aðalsal safnsins. Sýningin Tilraun – leir og fleira er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar. Þátttakendur sýningarinnar koma úr ólíkum starfstéttum sjónlista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin mismunandi orð til að vinna þau

útfrá. Í Sverrissal stendur yfir sýning sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, „3-5 sekúndur – Hröð, handgerð fram­leiðsla“ tekur á því hvernig neyslu og framleiðslu er háttað í dag og hvernig gera má betur í framtíðinni. Eftir upplesturinn verða dregnir út vinningar í lokahappdrætti sumarsins.

Sendið tilkynningar um viðburði á fjardarfrettir@fjardarfrettir.is

ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5a, Hafnarfirði

Vaktsímar: 565 5892 & 896 8242 • www.utfararstofa.is • Allan sólarhringinn

Öllum tölvupóstum verður svarað. Sverrir Einarsson

Kristín Ingólfsdóttir

Hilmar Erlendsson

ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA


FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

www.fjardarfrettir.is

Handboltavertíðin hafin Þrjú hafnfirsk lið í úrvalsdeild en kvennalið FH leikur í 1. deild

HAUKAR SNÉRU TAFLINU VIÐ OG SIGRUÐU Haukar sigruðu Fram í fyrstu umferð úrvalsdeildar kvenna. Lauk leiknum, sem var æsispennandi í lokin, með 21-20 sigri Hauka eftir að staðan hafði verið 7-12 í hálfleik og fátt leit út fyrir annað en sigur Fram.

ÍÞRÓTTIR Knattspyrna: 15. sept. kl. 17, Fylkisvöllur Fylkir - FH úrvalsdeild karla 17. sept kl. 14, Ásvellir Haukar - Selfoss, 1. deild karla 18. sept. kl. 14, Kaplakriki FH - Valur, úrvalsdeild karla

Ljósm.: Guðni Gíslason

Íslandsmótið í handknattleik er hafið og fyrstu heimaleikirnir voru í Kaplakrika þar sem kvennalið FH sigraði Víking örugglega, 25-19 þar sem Fanney Þóra Þórsdóttir skoraði 11 mörk fyrir FH. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem leikið er í tveimur deildum og var það hlutskipti FH-inga að leika í 1. deildinni þetta leiktímabil.

15

ÚRSLIT KVENNA: Fylkir - FH: 1-2 HK/Víkingur - Haukar: 2-2

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 6 mörk Leikurinn í kvöld var spennandi frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu þar sem varnirnar voru í aðalhlutverki. Jafnt var í hálfleik 11-11. Undir lokin náðu Valsmenn að jafna í 25-25 en FH-ingar skoruðu síðustu 2 mörkin og sigruðu í sínum fyrsta leik í Íslandsmótinu. Ásbjörn Friðriksson var markahæstur FH-inga með 7 mörk og þar af 5 af síðustu 6 mörkum FH-inga. Ásbjörn handarbrotnaði í leiknum og kom það í ljós í læknisskoðun eftir leikinn og verður hann frá nokkurn tíma.

SPENNULEIKUR FH OG VALS Í KARLAFLOKKI Á sunnudaginn tók FH á móti Val en liðin höfðu mæst á Hafnarfjarðarmótinu fyrir skömmu þar sem Valur sigraði.

Hinn 17 ára Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 3 mörk.

Ljósm.: Guðni Gíslason

HAUKAR TAPA Í EYJUM Eftir að hafa tekið þátt í Evrópukeppni með góðum árangri var búist við að Haukar yrðu grimmir í Vestmanna­ eyjum gegn ÍBV. Haukar sáu aldrei til sólar og ÍBV sigraði sannfærandi 34-28 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 21-16.

ÚRSLIT KARLA: FH - Breiðablik: 1-1 Keflavík - Haukar: 1-0 HK - Haukar: 1-1

Handbolti: 15. sept kl. 19.30, Ásvellir Haukar - Afturelding, úrvalsd. karla 15. sept kl. 19.30, Kaplakriki FH - Stjarnan úrvalsdeild karla 16. sept. kl. 18, Austurberg ÍR - FH 1. deild kvenna 17. sept. kl. 16, Fylkishöll Fylkir - Haukar, úrvalsdeild karla 19. sept kl. 19.30, Seltjarnarnes Grótta - FH úrvalsdeild karla 19. sept. kl. 19.30, Selfoss Selfoss - Haukar, úrvalsdeild karla ÚRSLIT KVENNA: FH - Víkingur: 25-19 Stjarnan - Haukar: 20-21 ÚRSLIT KARLA: FH - Valur: 27-25 ÍBV - Haukar: 34-28

Hringtorgi breytt að ósk Icelandair Bæjarstjórn samþykkti í gær breytingu á deildiskipulagi vegna mislægra gatnamóta Reykanesbrautar og Krýsuvíkurvegar. Beytingin fólst í að hringtorg var stækkað og einum

armi var bætt við svo tenging næðist við Flugvelli en Iclandair hafði óskað eftir þessu til að stytta leiðina að lóð þeirra. Engar athugasemdir bárust þegar breytingin var auglýst.

Vegtenging frá Reykjanesbraut að Rauðhellu er ekki innan þessa skipulags en þau gatnamót leggjast af við tvöföldun Reykjanesbrautar.

Fyrir

Að ósk forsvarsmanna Icelandair var deiliskipulagi breytt og viðbótar tenging var gerð á hringtorgið til að stytta aðkomu að vinnustað félagsins. Engin slík tenging er hins vegar að iðnaðarsvæðinu sunnan Krýsuvíkurvegar og breytist aðkoman að hverfinu verulega.


16 www.fjardarfrettir.is

FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016

Sund léttir lund

Móberg 6 Sérlega fallegt, vel inn­réttað parhús á einstökum stað í Setbergi

Flatahrauni 5a Boltinn í beinni og lifandi tónlist allar helgar. Tilvalinn staður fyrir einkasamkvæmi stærri og smærri hópa.

286,8 m² pallabyggt m/ innb. bílskúr. 4 sv.herb. og mögul, á fleirum

Happy Hour alla daga frá kl. 16 til 19 og fleiri flott tilboð á barnum.

Stofnuð 1983

styrkir barna- og unglingastarf SH

Ljósleiðari verður kominn inn á 52% heimila í árslok

Flatahrauni 5a, Hafnarfirði sími 578 0200

Sendibílar í Hafnarfirði

Gummi: 612 3229 Jón: 865 2929

Haustið kemur

Ljósm.: Guðni Gíslason

Gagnaveitan stefnir á að vera búin að ljósleiðaravæða hafnfirsk heimili 2018 Bæjarbúar sunnan lækjar hafa orðið var við heilmikið rask þar sem verktakar hafa verið að grafa niður ljósleiðara og leggja inn í hús. Þarna er Gagnaveita Reykjavíkur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur að leggja ljós­leiðara. Erling Freyr Guðmundsson, fram­ kvæmda­ stjóri Gagnaveitunnar segir í samtali við Fjarðarfréttir að skv. sam­ komulagi við Hafnarfjarðarbæ sé unnið að því að leggja ljósleiðara inn á öll heimili í Hafnarfirði. Allt stefni í að um 52% hafn­ firskra heimila verði komin með ljósleiðara inn í hús í lok þessa árs en það er nánast öll byggðin sunnan Hamarskotslækjar. Nú er verið að leggja ljósleiðara á Hvaleyrarholti og við Hringbraut.

geta upplýst að sá búnaður sem settur er upp á endastað sé sá besti og gefi möguleika á 1 Gb tengingu. Til að tengjast ljósleiðaranum þurfa notendur að hafa samband við einhverja af þeim sem selja internettengingar. Aðspurður um það hvað ráði því hvar sé lagt fyrst segir hann margt koma til en íbúar sem leggja mikla áherslu á að fá ljósleiðarartengingu geti tekið sig saman og þrýst á um að hverfið þeirra verði forgangsraðað framar en ella.

FYRIRTÆKIN ÚTUNDAN

1 GB TENGIBÚNAÐUR

Ljósm.: Guðni Gíslason

Segir Erling að stefnt sé að því að búið verði að koma ljósleiðara inn á öll hafn­ firsk heimili árið 2018. Hann segist stoltur

Fjölmörg atvinnuhverfi í bænum eru án ljósleiðara þó ýmis fyrirtæki hafi lagt út háan stofnkostnað til að taka inn ljósleiðara. Það hentar hins vegar ekki einyrkjum og litlum fyrirtækjum sem séu oft í leiguhúsnæði. Aðspurður segir Erling að það sé ávallt verið að skoða þetta mál

og ljóst sé að á endanum verði ljósleiðari lagður inn í öll atvinnuhúsnæði líka. Á Völlum er víðast fyrir sk. ljósnet og ljósleiðari frá Gagnaveitunni en um þessar mundir er Míla einnig að leggja annan ljósleiðara inn í sömu hús. En víða á atvinnu­ svæðunum er aðseins ADSL tenging sem hefur sums staðar hamlað atvinnuuppbyggingu þegar góð nettenging er nauðsynleg.

Nú kætast fuglarnir og haustlitirnir brjótast fram.

www.fjardarfrettir.is fjardarfrettir@fjardarfrettir.is

hafnfirski fréttavefurinn


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fjarðarfréttir 15. sept. 2016 - 5. tbl. 14. árg. by Fjarðarfréttir - Issuu