Vetrardekkjakönnun 2021
Vetrardekkjakönnun er unnin af NAF systurfélagi FÍB í Noregi í samvinnu við aðila í Svíþjóð og Noregi.
Eins og áður nær vetrardekkjakönnunin sérstaklega til þeirra dekkja sem gerð eru til að mæta vetraraðstæðum á norðlægum slóðum. Að prófununum komu sérfræðingar á ýmsum sviðum og tóku út margvíslega eiginleika dekkjanna. Prófunarbílunum var ekið bæði utan- og innandyra þar sem hægt er að hafa yfirsýn og stjórnun á öllum aðstæðum. Unnið er eftir ströngum faglegum kröfum varðandi alla verkferla í prófununum. Dekkjastærðin var 205/55 R16.
Stærstu dekkjaframleiðendur heims koma vel frá þessari könnun í ár líkt og áður. Í könnuninni voru átta nagladekk og átta vetrardekk án nagla prófuð. Goodyear – Ultra Grip Arctic 2 skoraði hæst í nagladekkjaflokki með 87 stig. Michelin -Ice North 4 lenti í öðru sæti með 81 stig og Nokian-Hakkapelitta 10 í þriðja sæti með 79 stig. Nordman 8, Pirelli -Ice Zero 2 og Continental -Ice Contant komu þar skammt á eftir. NexenWinguard Winspike e frá Suður-Kóreu hafnaði í neðsta sæti.
Í vetrardekkjum, ónegldum, skoraði Continental Viking- Contact 7 hæst, alls 91 stig. Goodyear – Ultra Grip Ice 2 hlaut 85 stig og Pirelli -Ice Zero Fr 84 stig. Kínversku dekkin Nordexx náðu aðeins 50 stigum.
Það skal skýrt tekið fram að dekkið sem skorar hæst hverju sinni þarf ekki að vera besti kosturinn. Mælt er eindregið með því að ekki séð horft á heildareinkunnina. Könnunin gefur ítalegar upplýsingar um mismunandi eiginleika dekkjanna við margvíslegar aðstæður sem ætti að hjálpa ökumönnum varðandi dekkjavalið fyrir veturinn.
Eins og venjulega er vetrardekkjaprófið ítarlegt og unnið þannig að bíleigandinn geti valið það dekk sem hentar best þeim vetraraðstæðum sem hann býr við og hvernig ökutækið er notað.
Þannig eru stigin reiknuð
Einkunn frá 1 til 5:
Í öllum prófununum eru dekkin flokkuð á kvarðanum frá 1 til 5. Gildin eru sem hér segir: 5 er ágætiseinkunn, 4 er gott, 3 er í meðallagi, 2 er þokkalegt og 1 er lélegt.
Hlutlæg og huglæg mæligögn:
Einkunnagjöfin er byggð á mælanlegum gögnum en við mat á aksturseiginleikum og hávaða er huglæg reynsla ökumanna einnig hluti af einkuninni.
Mismunandi vægi eftir
mikilvægi:
Sum prófin eru metin mikilvægari en önnur. Einkunn í ákveðnum prófunarþáttum margfaldast þess vegna með tveimur eða þremur. Sem dæmi má nefna veggrip á ís og snjó sem vegur þungt og er margfaldað upp með þremur sem gefur 15 stig að hámarki. Þannig fáum við niðurstöður sem meta góða eiginleika við erfiðar vetraraðstæður meira en eiginleika á þurru malbiki þar sem gripið er yfirleitt mun betra.
Þarfagreining:
Sem fyrr er mælt með því að horfa ekki bara í heildareinkunina. Veðurfarslegar aðstæður geta verið mismunandi eftir svæðum. Notkun ökutækis ræðst af búsetu og þörfum hvers og eins. Sumir fara lítið út fyrir sitt nærumhverfi á meðan aðrir sækja vinnu eða tómstundir um langan veg. Hver og einn þarf að vera meðvitaður um algengustu aðstæður til að meta á eiginleika dekkjanna. Þannig er ekki víst að sama dekkið henti íbúa í kjarna Höfuðborgarsvæðisins og þeim sem býr á Vopnafirði.
Aksturseiginleikar
Aksturseiginleikar og veggrip í akstri er metið með tímatökum á þar til gerðum brautum sem eru ýmist ísilagðar, snæviþaktar, eða auðar og þá bæði þurrar og votar. Í prófununum eru bílunum ekið til skiptis og markmiðið að ná sem stystum brautartíma þannig að ökulagið er hranalegt og samsett úr hröðun, hemlun og hröðum akstri í beygjum. Út frá meðaltali brautartíma allra ökumanna eru lokaeinkunnir reiknaðar.
Hröðun
Grip dekkjanna á ís og í snjó er mælt með því að ná upp mestri mögulegri hröðun bílsins. Tími hröðunarinnar á tilteknu hraðabili er síðan mældur. Á ís er hraðabilið 5-20 km/klst. Í snjó er það 5-35 km/klst. Þetta er margendurtekið yfir nokkurra daga tímabil, bæði utan- og innanhúss.
Hemlun
Hemlunarvegalengdir eru mældar í snjó, votu og þurru malbiki. Hvert hemlunarpróf er margendurtekið, 15-20 sinnum, við mismunandi hitastig yfir nokkurra daga tímabil. Á ís er hemlað frá 20 km niður í 5 km. Í snjó er hemlað frá 35 km hraða niður í 5 km. Á votu og þurru malmbiki er hemlað af 80 km hraða niður í 5 km. Hemlunarprófanir á snjó og ís fara fram bæði utan- og innanhús við mismunandi hita- og rakastig sem hægt er að stjórna og þannig lágmarka áhrif veðurs á niðustöðu.
Veggnýr
Ökumenn mæla og meta veggný hjólbarðanna eftir akstur á grófu vegyfirborði. Þeir meta veggnýinn, bæði sem ökumenn og farþegar í aftursæti. Niðurstaðan er meðaltal mælinga og einkunna bílstjóranna. Þetta er blindpróf.
Rásfestan
Rásfestan er metin með akstri í snjó eða á ísilögðu vegyfirborði með skröpuðum rásum. Þrír ökumenn meta hver í sínu lagi rásfestuna í þessum aðstæðum og einkunnin meðaltal af mati þeirra. Þetta er blindpróf. Ökumenn sem annast prófunina vita ekki hvaða dekkjategund er undir hverju sinni.
Aksturstilfinning
Ökumenn gefa hverri dekkjategund persónulega einkunn fyrir það hversu stöðugt og öruggt þeim finnst það í akstri. Það skiptir máli hvernig þeim fannst dekkið hegða sér í mismunandi akstursaðstæðum. Þetta er blindpróf sem þýðir að prófunarökumennirnir vita aldrei hvaða tegund er undir bílnum á hverjum tíma.
Nagladekk
1
Goodyear Ultra Grip Arctic 2
Fjöldi nagla: 190
Hörkustig (Slitflötur): 59
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 10,2 kg
Framleiðsludags: Vika 31 2020
Framleiðsluland: Pólland
Söluaðili: Klettur
Verð per. dekk:
Nýja Arctic 2 dekkið frá Goodyear setur ný viðmið hvað varðar hemlun á ís og skorar vel á öllum sviðum á ís og í snjó
Í akstri þar sem reynir á grip til hliðanna fer dekkið að erfiða. Vart verður við skort á jafnvægi og er það öðrum dekkjum síðri í svigakstri.
Goodyear skipar sér í efstu sæti í nær öllum prófunum á malbiki. Það sama gildir um akstur á malbiki og í snjó að dekkið sýnir sínar bestu hliðar við akstur á beinum vegi en dregur aðeins undan þegar kemur að svigakstri.
Góður stöðugleiki og tilfinning í akstri skilar góðu dekki við flestar aðstæður og sérstaklega gott við akstur á ís.
Kostir: Gott grip á ís, hemlun við allar aðstæður Ókostir: Mikið viðnám, lítil akstursánægja
NOKIAN HAKKAPELIITTA 10 3
Fjöldi nagla: 220
Hörkustig (Slitflötur): 54
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,3 kg
Framleiðsludags: Vika 1 2021
Framleiðsluland: Finnland
Söluaðili: Max1
Verð per. dekk: 28.531 kr.
Nýja nagladekkið frá Nokian stóð sig vel eins og við mátti búast. Í samanburði við fyrri útgáfu þá virðist Nokian hafa lagt aukna áherslu á hemlunareiginleika. Það er ekki alveg jafn gott í beygju og jafnvægið virðist hafa dvínað eftir því sem þær urðu krappari. Gripið er samt áfram á sínum stað.
Við akstur á blautum vegi þá eru eiginleikar enn mjög góðir en tilhneyging til að fara á flot við aukinn vatnsaga.
Á þurrum vegi er tíunda kynslóð stöðugri en fyrirrennari þess og sérstaklega við akstur á beinum vegi. Veggnýr hefur einnig minnkað en er samt sem áður ekki jafn hljóðlátt og þau bestu. Áhersla og vetrarakstur og eiginleikar á auðum vegi skila dekkinu þriðja sæti.
Kostir: Gott grip jafnt í snjó og blautu malbiki.
Ókostir: Bremsuvegalengd á þurru malbiki, flot í vatnsaga.
2
MICHELIN X-ICE NORTH 4
Fjöldi nagla: 250
Hörkustig (Slitflötur): 54
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,9 kg
Framleiðsludags: Vika 44 2020
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: Costco / N1
Verð per. dekk: - / 29.990 kr.
Eftir að hafa sigrað tvö ár í röð þá lendir Michelin í öðru sæti að þessu sinni. Grunnur að fyrri sigri hefur verið góð frammistaða í ísilögðum hringakstri. Gripið er enn frábært en ekki það besta. Eins og Goodyear dekkið þá koma bestu eiginleikar fram við vetrarakstur en einnig er það rásfastara.
Á malbiki sýnir dekkið góðan stöðugleika og tilfinningu upp í stýri. En grip og nákvæmni fer minnkandi þegar kemur að kröppum beygjum.
Hljóðvist er sú besta af öllum dekkjum sem prófuð voru.
Góð niðurstaða við hemlun á þurru malbiki en á móti var gripið ekki jafn mikið á því blauta.
Þægileg dekk með góða vetrareiginleika skila öðru sæti.
Kostir: Gott grip við vetraraðstæður, stöðugleiki á þurrum vegi.
Ókostir: Grip á blautu malbiki
4-5
NORDMAN 8
Fjöldi nagla: 190
Hörkustig (Slitflötur): 56
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,2 kg
Framleiðsludags: Vika 51 2020
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: Max1
Verð per. dekk: 16.990 kr.
Nordman deilir fjórða sæti með Pirelli. Dekkið er byggt á Hakkapeliitta 8 og skilar þessu nýja Norska dekki stuttri hemlunarvegalengd í snjó og ís. Einnig skilar dekkið góðu jafnvægi þar ekið er inn í beygjur og við svigakstur. Gripeiginleikar voru aðeins lakari en hjá Nokian án þess þó að hafa tapað karakter.
Nordman 8 hefur tekið miklum framförum miðað við fyrirrennara sinn en Nokian hefur samt vinninginn varðandi jafnvægi milli snjó og malbiksaksturs. Nordman er með slakari rásfestu á þurru yfirborði og ónákvæmni í stýri ásamt auknum veggný.
Á heildina litið er þetta gott dekk en ekki jafn gott og þau bestu.
Kostir: gott grip við vetraraðstæður, lætur vel að stjórn undir álagi.
Ókostir: Hemlun á blautum vegi, tilfinning á þurrum vegi.
Nagladekk
4-5
Fjöldi nagla: 190
Hörkustig (Slitflötur): 56
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,8 kg
Framleiðsludags: Vika 5 2021
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: Nesdekk
Verð per. dekk: 27.990 kr.
CONTINENTAL ICECONTACT3
Pirelli Ice Zero 2 sem kom nýtt fram í fyrra, deilir í ár
76 STIG
fjórða sætinu með Nordman 8. En það er mjög ólíkt með þessum tveimur hvernig stigin raðast upp. Hjá Nordman koma þau mest frá árangrinum á snjó og ís meðan Pirelli nær sínum árangursstigum á auðum vegum þar sem það er best dekkjanna að þessu sinni. Það hefur stystu hemlunarvegalendirnar á bæði á þurrum sem blautum vegum og þægilegustu almennu aksturseiginleikana meðal negldu dekkjanna á auðum vetrarvegum. Því til viðbótar er Pirelli í hópi þeirra sem minnst er hætt við að fljóta upp í vatnsaga.
Akstursánægjan á Pirelli skilar sér reyndar líka í akstri í vetrarfærinu, þ.e. snjó og hálku og er vel stöðugt í beygjunum þar. En því miður er gripið á ís nokkuð langt frá þeim bestu.
Kostir: Best og skemmtilegast í akstra af negldu dekkjunum.
Ókostir: Slakt grip á ís.
Fjöldi nagla: 252
Hörkustig (Slitflötur): 59
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,9 kg
Framleiðsludags: Vika 37 2020
Framleiðsluland: Kína
Söluaðili: -
Verð per. dekk: -
Þetta er önnur kynslóð Winter Grip hjólbarðanna í Greenmaxlínunni frá Linglong í Kína. Af þeim negldu er þetta dekk með flesta naglana, hvorki meira né minna en 252 nagla í hverju dekki sem segir sína sögu um markmiðin þegar verið var að hanna og þróa dekkið og það skilar sér vissulega í öllum ísprófunum þar sem Linglong gerir umtalsvert betur en vænta hefði mátt. Hemlun á ís er þannig með því besta og ekki versnar það á ísbrautinni. Þar er gripið með besta móti.
En þar með eru góðu fréttirnar á enda því að grip á öðru undirlagi er mun síðra og á auðum vegum er mikill veggnýr leiðigjarn. Gripið á votum vegi er heldur ekki sérstakt en að lokum verður að segja að það er gjarnast dekkjanna til að fljóta upp í vatnsaga. Linglong er gert fyrst og fremst fyrir vetraraðstæður, einkum ísingu. Þar á það heima. Tæpast annarsstaðar.
Kostir: Gott grip á ís.
Ókostir: Slakt grip í snjó. Gjarnt á að fljóta upp í vatnsaga.
Fjöldi nagla: 190
Hörkustig (Slitflötur): 61
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,9 kg
Framleiðsludags: Vika 5 2021
Framleiðsluland: Þýskaland
Söluaðili: BJB
Verð per. dekk: 29.905 kr.
Continental veldur vonbrigðum að þessu sinni. Nú hefur það fengið venjulega álnagla í stað hinum misheppnuðu nöglum síðustu tveggja vetra sem voru út gúmmíi en með málmodda. Í fyrra stóð Conti sig í meðallagi á ís en í ár skaga naglarnir óvenju stutt út úr slitfletinum og það skilar sér í vondu beyjugripi á ísnum. Hreint út sagt er gripið á ís ekki gott.
Aðra sögu er að segja í snjó. Þar má aftur finna þá tryggu eiginleika sem lengstum hafa einkennt Continental. Í beygjunum grípur það vel, er stöðugt og gripið minnkar þar stig af stigi í réttum takti við vaxandi hraða – ekki snöggt og óvænt. Svipað er að segja um akstur á auðum vegum. Þar eru góðu eiginleikarnir ríkjandi og það svarar vel og örugglega í neyðartilvikum þegar bregðast þarf snögglega við til að forða hættu. Lélegt ísgrip dekksins hins vegar dregur það niður og af þeim sökum nær það einungis 6. sæti að þessu sinni.
Kostir: Öruggt og auðvelt, ekki síst þegar hætta steðjar að.
Ókostir: Slakt grip á ís.
Fjöldi nagla: 192
Hörkustig (Slitflötur): 60
Hraða- og burðarþol: 94T
Þyngd: 9,9 kg
Framleiðsludags: Vika 51 2020
Framleiðsluland: Kórea
Söluaðili: Klettur
Verð per. dekk: -
Þetta ný-þróaða Nexen vetrardekk veldur vonbrigðum. Í prófunum á ísnum stóð það hinum dekkjunum langt að baki. Þar missti það mjög snögglega gripið í beygjum og alltaf fyrst á afturhjólunum. Það þýðir óumbeðið og óæskilegt skrens sem erfitt getur orðið að vinda ofan af. Vetrardekk sem ætlað er norrænum aðstæðum verður að vera betra en þetta. Það er ekki flóknara.
Á snjóbrautinni eru það á hinn bóginn framhjólin sem líða undir lélegu gripi. Þar vantar hliðargripið mjög og það er eins og dekkið vilji ekki taka beygjur heldur halda áfram beint ef gefið er aðeins í út úr beygju.
En Nexen hefur vissa kosti á auðum vegum, ekki síst á blautu malbiki. Þar hefur það gott beygjugrip og stuttar hemlunarvegalengdir.
Mikill vegdynur og greinilegt hljóðendurkast er svo lokastaðfestingin sem tryggir Nexen neðsta sætið að þessu sinni.
Kostir: Hemlunarvegalengdir eru hóflegar á auðum vegum Ókostir: Afleitt beygjugrip á ís.
PIRELLI ICE ZERO 2
LL GREENMAX WINTERGRIP2
NEXEN WINGUARD WINSPIKE 3
Hvernig var prófað
Ís- og snjómælingar voru gerðar að nóttu til á tilraunabrautum fyrir utan sænska bæinn Alvsbyn um miðjan mars 2021.
Prófunarbílarnir voru af gerðinni VW Golf VII. Rafrænu aðstoðarkerfin, hemlalæsivörn (ABS) og skrikvörn, voru tengd. Skrikvörnin var með sport stillingu til að auka á snúning hjólanna, rásun í hálku og auka flæðið í akstri sem aftur hjálpar til við að vega og meta eiginleika dekkjanna við erfiðar aðstæður.
Í hemlunar- og hröðunarprófunum byrjuðu mælingar og enduðu við 5 km/klst til að lágmarka skekkjumörk sem tæknibúnaður bílsin getur framkallað (ABS og snúningsvörn).
Prófanir á þurru og og blautu malbiki voru gerðar í bænum Gislaved í Svíþjóð í byrjun maí og í þeim voru notaðir bílar af gerðinni Seat Leon ST. Eldsneytisnotkunin var mæld á braut fyrir utan Tampere í Finnlandi. Notast var við VW Golf GTI og ekið á stöðugum hraða, 60 km/klst. Þarna voru einnig framkvæmdar rannsóknir á flotun og vatnslosun dekkjanna.
Hröðun frá 5 til 15 km/klst. Meðaltal úr tveimur aksturslotum og 12 hröðunum á hvert dekk. Frábært grip hjá hinum nýju Nokian og Goodyear sem jafna árangur fyrrum ísmeistarans frá Michelin. Nordman og Linglong grípa líka vel en Conti veldur vonbrigðum og Nexen er vonlaust.
ABS hemlun frá 15 til 5 km/klst. Meðaltal 36 hemlana í þremur lotum. Mjög misjafn árangur. Goodyear er í sérflokki með stysta hemlunarvegalengd. Næst kemur Michelin og Linglong kemur á óvart og nær næstum að jafna Nokian. Hin hemla mun verr.
Ekið á íslilagðri braut. Brautartímar eru meðaltal þriggja tilrauna. Linglong kemur aftur á óvart, nú með góðu beygjugripi. Michelin og Goodeyar hemla betur en hin inni í beygjunum og hafa betra grip út úr þeim en kínverska dekkið er þeim næstum jafnfætis.
Hröðun 5-35 km/klst. Meðaltal 12 tilrauna í þremur lotum. Í snjó skiptir dekkjamynstrið öllu en naglar litlu sem engu. Pirelli hefur besta snjógripið en þau sem á eftir því koma eru furðu jöfn.
ABS hemlun frá 35 til 5 km/klst. Meðaltal 24 tilrauna í tveimur lotum. Munur á dekkjunum í snjó er lítill, sérstaklega þeim þurra kalda snjó sem lá yfir þegar þessi prófunarþáttur stóð yfir. Conti og Goodyear mælast með stystu hemlunarvegalengdirnar. Linglong er með slakasta gripið.
Meðaltími sex umferða um aksturs-braut í tveimur lotum. Conti hefur gott jafnvægi í öllum akstri og gefur ökumanni snemma og stig af stigi merki um þegar veggrip tekur að losna og auðvelt er að stýra bílnum inn í krappar beygjur. Hvorki Michelin, Nokian né Goodyear er því jafnfætis í þessu.
Hemlað frá 80-5 km/klst. Pirelli hemlar best og sömuleiðis Nexen. Þau sem á eftir þeim koma eru nokkuð jöfn og þeirra á meðal er Goodyear sem sýnir að það þurfi ekki að vera mótsögn fólgin í góðu gripi á ís og líka á blautu malbiki. Michelin er slakast í bleytunni.
Hemlað frá 80-5 km/klst. Eins og í bleytunni hemlar Pirelli líka best á þurru. Michelin ræður miklu betur við hemlun á þurru en í bleytunni. Nokian, Linglong og sérstaklega Nordman þarf lengri hemlunarvegalengd.
Hér er sýndur hraðinn þegar dekk flýtur upp (planar) í 7 mm djúpu vatni. Þetta er gert við hröðun og kannað er á hvaða hraða það er þegar það missir veggripið og byrjar að spóla og snúast 15 prósent hraðar en það ætti að gera miðað við hraða bílsins. Niðurstöðurnar eru meðaltal fimm tilrauna. Mynstur Pirelli og Nexen ryður vatni best frá sér. Linglong er síst.
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í sekúndum
Mældur hraði við flot
Hemlun úr 80 - 5 km/h mælt í sekúndum
CONTINENTAL VIKING CONTACT 7 1
Hraða- og burðarþol: 94T
Hörkustig (Slitflötur): 51
Þyngd: 9,5 kg
Framleiðsludags: Vika 44, 2020
Framleiðsluland: Þýskaland
Söluaðili: BJB
Verð á eitt dekk: 29.905 kr.
Viking Contact 7 er það vetrardekk sem þeir sem aka þurfa á svelluðum vegum að vetrarlagi þarfnast. Þetta er dekk sem megnar að halda bílnum, eftir því sem mögulegt er, tryggilega við veginn, enda þótt engir séu í því naglarnir til að krafsa í ísinn. Mjög alhliða og gott vetrardekk við flestallar vetraraðstæður. Í harkalegum akstri, hvort heldur í snjó og ísingu eða á auðum vegum, lætur það ökumanninn finna stig af stigi þegar og ef losna tekur um veggripið, en tapar því ekki óvænt og skyndilega. Þá er hálkugrip þess einstaklega gott.
Hálkugripið er að hluta að þakka hve mjúkt dekkið er, jafnvel í nístandi kulda. En þótt það sé sérlega mjúkt er það samt stöugt og rásfast í öllum akstri. Þótt hafi sýni ekki stystu hemlunarvegalengdir í mælingum á þurru og blautu malbiki þá stöðvast það vel innan ásættanlegra marka. Mynstrið á slitfletinum er smágert og það skilar því að það er hljóðlátt í akstri. En hið fínlega mynstur á erfiðara með að ryðja frá sér vatni og krapi og því er það ekki meðal þeirra sem mestum hraða ná í vatnselg áður en þau fljóta upp (plana).
En allir aksturseiginleikar eru jafnir og góðir og þeir skila Continental Viking Contact 7 í efsta sætið í ár.
Kostir: Besta vetrargripið. Rólegt, öruggt og hljóðlátt við allar aðstæður.
Ókostir: Flýtur fremur fljótt upp í vatnsaga.
Hraða- og burðarþol: 94T
Hörkustig (Slitflötur): 56
Þyngd: 9,4 kg
Framleiðsludags: Vika 46, 2020
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: Nesdekk
Verð á eitt dekk:
Pirelli dekkið sem ættað er frá Ítalíu en framleitt í Rússlandi sameinar það sem áður var talið ill-sameinanlegt, að hafa gott grip í vetrarfærinu en vera samt um leið gott og öruggt á auðum vegum. Pirelli er með þeim skemmtilegustu í akstri óháð því hvert undirlagið er. Það er svarar öllum hreyfingum stýris og bíls í heild og er síst ónegldu norðurslóðadekkjanna til að undirstýra.
Pirelli skilar tiltölulega stuttum hemlunarvegalengdum á auðum, þurrum eða votum vegum samanborið við önnur vetrardekk. Það er auðvelt í akstri í vetrarfæri en hafa skal í huga að hemlunarvegalengd á ís er í lengra lagi. Hvað veggnýinn varðar þá er það viðkvæmt fyrir vegyfirborðinu og gerð þess og er framur hávært á sumum gerðum vegyfirborðs.
Pirelli Icezero FR er í senn ágætis vetrardekk en jafnframt prýðilegt á auðum vegum og verðskuldar fyllilega þriðja sætið í þessari könnun.
Kostir: Fyrirtaks aksturstilfinning við allar aðstæður. Ókostir: Hemlunarvegalengd á ís full löng. Viðkvæmt fyrir flotun í vatnsaga.
2
GOODYEAR ULTRA GRIP ICE2
Hraða- og burðarþol: 94T
Hörkustig (Slitflötur): 58
Þyngd: 8,6 kg
Framleiðsludags: Vika 40, 2020
Framleiðsluland: Pólland
Söluaðili: Klettur
Verð á eitt dekk: 32.990 kr.
Þetta Goodyear dekk er besta óneglda vetrardekkið í vætu og bleytu en slakir vætueiginleikar hafa áður verið fylgifiskur Goodyear. En Ultra Grip ICE2 er ekki bara gott í bleytu heldur líka á auðum þurrum vegum og náði bestu brautartímunum á akstursbrautunum. En þrátt fyrir að sjaldan fari saman jafngóðir eiginleikar í öllum akstursaðstæðum þá má geta þess að Goodyear sem nær einum stystu hemlunarvegalengdum í snjó og á ís, hefur líka stystu hemlunarvegalengdirnar á auðum og þurrum vegum, en það tvennt hefur sjaldnast farið saman.
En það er svosem ekki al-fullkomið. Það getur virkað óstöðugt í beygjum í vetrarfærinu og eins og það flökti milli þess að yfirstýra og undirstýra í beygjum og við það að missa gripið nokkuð skyndilega.
En á heildina litið er þetta dekk eins konar millistig milli meginlandsdekkjanna sem eru frábær í vatni og krapi en síðri í snjó og ísingu. Ultra Grip ICE2 brúar vel bilið milli norðurslóðadekkjanna og meginlandsdekkjanna vegna góðra eiginleika sinni í snjó og ísingu sem þau fyrrnefndu skortir.
Kostir: Besta norðurslóðadekkið á auðum en blautum eða þurrum vegum.
Ókostir: Getur virkað eins og ,,taugaveiklað” þegar það er við það að tapa gripi á ís og snjó.
4
Hraða- og burðarþol: 94T
Hörkustig (Slitflötur): 55
Þyngd: 8,3 kg
Framleiðsludags: Vika 33, 2020
Framleiðsluland: Finnland
Söluaðili: Max1
Verð á eitt dekk: 26.790 kr.
Nokian var og er frumkvöðull í því að gera góð, ónegld vetrardekk enda þótt þetta dekk skipi ekki sigursæti einmitt nú. R3 dekkið skilar vissulega sínu sem vetrardekk ágætlega en þykir ekki skila jafn góðri og tryggri aksturstilfinningu en sum hinna, sérstaklega á auðum vegum. Ökumönnum fannst það heldur ekki svara stýrinu vel þegar snöggvikið var frá hindrun og dekkin svöruðu stýrinu ,,ó-línulega.” Þetta er það sem dregur Nokian dekkið niður í stigagjöfinni.
En mælingarnar tala sínu máli og þær sýna tiltölulega stuttar hemlunarvegalengdir á þurrum sem votum vegum, ágætis veggrip í beygjum og við hröðun í snjó og á ís. Hemlunarvegalengd á ís og snjó var hins vegar í lengra lagi. Núningsmótstaða Nokian (eldsneytiseyðsla) er sömuleiðis lág. Þá er það talsvert hávært, sérstaklega á sumum hraðastigum og í þeim efnum er það viðkvæmt fyrir því hvers konar vegyfirborði er ekið á. Að öllu þessu samanlögðu fleytir þetta allt Nokian inn í fjórða sætið.
Kostir: Gott veggrip og góðir aksturseiginleikar í öllu vetrarfæri
Ókostir: Viðkvæmt fyrir flotun. Hávært. Slakara í akstri á auðum vegum.
PIRELLI ICEZERO FR
NOKIAN HAKKAPELIITTA R3
Hraða- og burðarþol: 94H
Hörkustig (Slitflötur): 57
Þyngd: 10,3 kg
Framleiðsludags: Vika 31, 2020
Framleiðsluland: Kína
Söluaðili: Costco / N1
Verð á eitt dekk: - / 27.990 kr.
Til er sú saga að Michelin leggi sig fram um það í framleiðslu sinni á hjólbörðum til daglegs brúks að leggja megináhersluna á góða hemlun fremur en traust veggrip í beygjum. Miðað við frammistöðu X-Ice Snow dekksins gæti þetta svo sem verið rétt. Í það minnsta hemlardekkið ágætlega þarf ekki langar vegalengdir til þess og sömuleiðis er það fljótt að ná upp hröðun.
Beygjugripið er hins vegar ekki eins traust. X-Ice Snow skrensar auðveldlega og undirstýrir gjarnan og bregst eiginlega ekki vel við snöggum stýrishreyfingum.
Á þurrum vegum er það vel rásfast og hemlar prýðilega en öðru máli gegnir um votan veg. Þar eru hemlunarvegalengdir í lengra lagi og dekkið skrensgjarnt í beygjum. Ennfremur er það viðkvæmt gagnvart flotun eins og raunar mörg fleiri.
Loks er það nokkuð hávært í akstri þannig að allt þetta skilar X-Ice Snow inn í fimmta sætið í ár.
Kostir: Stuttar hemlunarvegalengdir á ís og snjó. Rásfesta á þurrum vegi.
Ókostir: Veikara beygjugrip en flest hin í könnuninni. Langar stöðvunarvegalengdir í bleytu.
Hraða- og burðarþol: 91H
Hörkustig (Slitflötur): 67
Þyngd: 8,1 kg
Framleiðsludags: Vika 48, 2020
Framleiðsluland: Þýskaland
Söluaðili: BJB
Verð á eitt dekk: -
Þetta nýja óneglda TS870 vetrardekk frá Continental er tekið með í þessari könnun á vetrardekkjum sem sérstaklega hafa verið framleidd til að mæta aðstæðum og þörfum akandi fólks á norðlægum slóðum. TS870 er það ekki heldur er það hugsað og framleitt fyrir algengustu vetraraðstæður á meginlandi Evrópu þar sem sjaldnar snjóar og snjór og ís liggja sjaldan mjög lengi á vegum en rigningar og væta eru þeim mun algengari.
Það þarf því vart að koma á óvart að að TS870 hefur mikla yfirburði í bleytu yfir norðurslóðadekkin. Það þarf miklu meiri hraða í bleytu áður en það missir gripið og spjarar sig ágætlega í snjó en hreint ekki á ís. Á ísnum geta stöðvunarvegalengdir orðið skuggalega langar. Allt kemur þetta skýrt fram í töflunum í þessari könnun.
Kostir: Lítt næmt fyrir flotun. Góðir aksturseiginleikar á auðum vegum.
Ókostir: Stöðvunarvegalengdir á ís. Heldur háværara en norðurslóðadekkin almennt.
Hraða- og burðarþol: 96T
Hörkustig (Slitflötur): 57
Þyngd: - kg
Framleiðsludags: Vika 49, 2019
Framleiðsluland: Suður Kórea
Söluaðili: Klettur
Verð á eitt dekk: 16.990 kr.
Nýja óneglda Nexen vetrardekkið vitnar um að þessi s. Kóreski framleiðandi er að sækja í sig veðrið. Þetta Nexen dekki kemur á óvart með að vera meðal þeirra bestu í bæði hröðun og hemlun á og hemlunarvegalengdin á ís reyndar sú stysta í þessari prófun.
Beygjugripið er hins vegar ekki jafn gott og í beygjum vill dekkið undirstýra. En í samanlögðum snjó- og ísþrautunum er það þó þannig að einungisNokian og Continental fengu hærri meðaleinkunn heldur en Nexen.
En því miður er eins og þessi góði árangur í vetrarfæri sé á kostnað aksturseiginleikanna á auðum vegum. Á þurrum malbikuðum vegi er tilfinningin í stýrinu eins og ójöfn og bíllinn er eins og óstöðugur í akstri og hemlunarvegalengdin er of löng. Á blautu malbiki er hætta á að bíllinn yfirstýri í beygjum þar sem afturhjólin verða fyrst til að missa veggripið ef svo ber undir.
En að öllu athuguðu er Nexen ekki slæm viðbót inn á vetrardekkjamarkaðinn og kostirnir skila dekkinu inn í fimmta sætið.
Kostir: Tiltölulega gott veggrip í öllu vetrarfæri
Ókostir: Langar hemlunarvegalengdir á þurru malbiki. 64 STIG
Hraða- og burðarþol: 91T
Hörkustig (Slitflötur): 56
Þyngd: 9,1 kg
Framleiðsludags: Vika 23, 2020
Framleiðsluland: Kína
Söluaðili: Nesdekk
Verð á eitt dekk: 11.990 kr.
Nordexx er lágverðsdekk, sérstaklega framleitt í Kína fyrir stórt danskt dekkjainnflutningsfyrirtæki sem heitir NDI og dreifir hjólbörðum um öll Norðurlönd.
En þrátt fyrir þessa norrænu tengingu þá er þetta Wintersafe dekk ekki eftirsóknarvert og veldur vonbrigðum. Það er vegna þess að það er einfaldlega ekki nógu gott. Það er lélegt bæði í snjó en þó sérstaklega á ís og það versta við það í akstri er að það á það til að missa skyndilega veggripið án nokkurs aðdraganda eða merkjanlegra fyrirboða af einhverju tagi og það getur sett ökumenn í slæman og alvarlegan vanda þegar síst skyldi.
Það er ekki bara í snjó og ísingu sem þetta getur gerst heldur líka á auðum vegi, sérstaklega í votviðri en líka þegar snöggbeygja þarf framhjá hindrun og vegur er skraufaþurr.
Ennfremur er hljóðvistin í bílnum óskemmtileg þegar ekið er um á Wintersafe því dekkið er háværasta óneglda vetrardekkið sem prófunarfólkið hefur komist í tæri við hingað til. Skilaboð prófunarfólksins eru því þessi: -Forðist að kaupa Nordexx Wintersafe Ice.
Kostir: Fremur lítið næmt fyrir flotun
Ókostir: Erfitt að hafa fulla stjórn á bílnum. Mjög hávaðasamt
MICHELIN X-ICE SN0W
NEXEN WINGUARD ICE PLUS WH43
61 STIG
50 STIG
Hröðun frá 5 til 15 km/klst. Meðaltal úr tveimur aksturslotum og 12 hröðunum á hvert dekk. Besta gripið hjá Nokian og Continental en síst hjá Nexen. Meginlandsdekkið sem ekki er framleitt sérstaklega til notkunar á norðlægustu slóðum, hefur allt annað og verra grip en hin öll.
ABS hemlun frá 15 til 5 km/ klst. Meðaltal 36 hemlana í þremur lotum. Stysta hemlunarvegalengdin er hjá Continental og umtalsvert lengri er hún hjá Pirelli og Nordexx. Meginlandsdekkið sker sig síðan algerlega úr og er greinilega ekki vel til þess fallið að bremsa á ísilögðum brautum norðlægra slóða.
Ekið á íslilagðri braut. Brautartímar eru meðaltal þriggja tilrauna. Continental hefur besta gripið í beygjunum, en Pirelli gerir það líka mjög gott. Goodyear og Nokian tapa tíma í miklu frosti og þegar ísinn er mjög þurr. Þessu er alveg öfugt farið með Nexen, því kaldara sem er, þeim mun betur gengur því. Nordex á það til að tapa gripinu snögglega og fyrirvaralaust. Meginlandsdekki reyndist vera auðveldara í akstrinum en það.
Hröðun 5-35 km/klst. Meðaltal 12 tilrauna í tvemur lotum.
Meginlandsdekkið stendur sig vel í snjónum og sker sig lítið úr norðurslóðadekkjunum. Pirelli er á toppnum hér.
ABS hemlun frá 35 til 5 km/ klst. Meðaltal 24 nauðhemlana í tveimur lotum. Munur á dekkjunum hér er ekki mikill og aftur er Pirelli best. Meginlandsdekkið er með lengstu hemlunarvegalengdina en munurinn er þó hóflegur
Meðaltími sex umferða um akstursbraut í tveimur lotum. Þrjú efstu; Continental, Pirelli og Nokian hafa öll ágæta og jafna eiginleika. Nordexx vill missa gripið snögglega og fyrirvaralaust og Nexen nær beygjum treglega. Meginlandsdekkið er létt í akstri allt til endimarka gripþols síns.
Hemlað frá 80-5 km/klst. Meginlandsdekkið er í algerum sérflokki hér með lang stystu hemlunarvegalengdina. Í ,,norðurslóðadekkjaflokknum” er það svo Goodyear sem er ljóslega betri en hin. Nexen er endurbætt frá fyrra ári en loks er það Michelin sem vermir neðsta sætið.
Hemlað frá 80-5 km/klst. Eins og í bleytunni er það meginlandsdekkið sem er af Bridgestone, sem hefur stysta hemlunarvegalengd. Nexen sem er það þriðja neðsta sæti nær þó að stansa innan ásættanlegra marka en Nordexx varla.
Hér er sýndur hraðinn þegar dekk flýtur upp (planar) í 6 mm djúpu vatni. Þetta er gert við hröðun og kannað er á hvaða hraða það er þegar það missir veggripið og byrjar að spóla og snúast 15% hraðar en það ætti að gera miðað við hraða bílsins. Niðurstöðurnar eru meðaltal fimm tilrauna. Enn er það meginlandsdekkið sem skipar sér í sérflokk hér en Goodyear er best norðurslóðadekkjanna.
Mældur hraði við flot
Hemlun úr 80 - 5 km/h