Eins og endranær er vetrardekkjakönnun FÍB-blaðsins unnin af norska systurfélaginu NAF. Norska félagið kostar gerð þeirra með nokkrum fjölmiðlum í Noregi, Svíþjóð og Rússlandi. Vetrardekkjakönnunin nær sérstaklega til dekkja sem eru gerð til að mæta vetraraðstæðum á norðlægum slóðum.
Prófanir á ís og snjó fóru fram á prófunarbrautinni í Sottozero Center fyrir utan Älvsbyn í Norður-Svíþjóð í febrúar 2020. Viðeigandi öryggisbúnaður s.s. ABS og skikvörn var í sambandi. Allar mælingar á þurru og blautu malbiki voru framkvæmdar í prófunarbrautinni í Gislaved í Svíþjóð í apríl.
Mælingar á eldsneytiseyðslu og uppflotsrannsóknir fóru fram á prófunarbraut Trampere í Finnlandi.
Af kostgæfni eru dekkin sem prófa á keypt í almennum hjólbarðaverslunum til að koma í veg fyrir að dekk sem hugsanlega hafa verið aðlöguð að prófunum taki þátt í könnuninni. Þegar nýjar dekkjagerðir eru ekki enn komnar í verslanir þegar könnunin hefst er þeirra aflað hjá framleiðendum og síðar bornar saman við sömu gerðir úr almennri verslun og ætluð almennum viðskiptavinum.
Vetrardekkjakönnun 2020
Vetrardekkjakönnun FÍB er unnin upp úr könnun sem félag norskra bifreiðaeigenda, NAF, vann og stóð straum að í samvinnu við aðila í Noregi og Svíþjóð. Í þessari könnun NAF nær vetrardekkjakönnunin að mestu leyti til dekkja sem eru gerð til að mæta vetraraðstæðum á norðlægum slóðum. Þeir aðilar sem komu að könnuninni eru sérfræðingar á sínu sviði og hafa í mörg ár unnið samslags kannanir. Prófanirnar fara fram á svæðum þar sem hægt er að stjórna nákvæmlega öllum aðstæðum.
Prófin á dekkjunum fara fram eftir ströngustu reglum og þau prófuð á mismunandi fleti – prófunarhring eftir prófunarhring. Prófanir fara fram bæði utan- og innahúss eftir ýtrustu reglum við aðstæður sem ökumenn þurfa að kljást við í vetrarakstri.
Könnun sem þessi er ekki síst framkvæmd til þess að bifreiðaeigendur geti auðveldað val sitt á hjólbörðum fyrir veturinn sem fram undan er enda framboðið töluvert í þeim efnum.
Ökumenn gefi sér góðan tíma
Það sem öðru máli skiptir er að ökumenn skoði vel hvaða dekk eru í boði og gefi sér góðan tíma til að komast að endanlegri niðurstöðu. Könnunin er tvímælalaust góð leiðsögn í dekkjakaupum og léttir undir við leitina að góðum og traustum dekkjum sem veita hverjum og einum öryggi. Ekki síst dekk sem hæfa þínum vetraraðstæðum og þinni bifreiðanotkun hverju sinni.
Í könnuninni voru átta dekk í hvorum flokki í stærðinni 205/60 R16 en þessi stærð passar undir flesta fjölskyldubíla. Í prófinu var stuðst við VW Golf og Ford Focus á snjó og ís en við Ford Focus á malbikuðum vegi. Dekkjaframleiðendur frá Continental, GT Radial, Hankook, Michelin, Nokian, Nordman, Pirelli og Toyo tóku þátt í könnunini að þessu sinni. Allar mælingar og prófanir voru framkvæmdar með búnaði frá NAF til að tryggja árangur sem utanaðkomandi aðilar höfðu ekki áhrif á. Könnunin fór að hluta til fram í sænska smábænum Älvsbyn við fullkomnar aðstæður sem þar hefur verið komið upp. Prófanir á malkbiki fóru m.a. fram í Smálöndum í Svíþjóð.
Í vetrardekkjakönnuninni í ár skera stóru dekkjaframleiðendurnir sig nokkuð úr eins og jafnan áður í könnunum þessum í gegnum árin. Continental VikingContact 7, Nokian Hakkapeliitta R3, Goodyear Ultra Grip Ice2 og Pirelli Ice Zero Fr röðuðu sér í efstu sætin í vetrardekkjum. Continental skoraði hæst með 88 stig en annars voru dekkin í könnuninni
að koma misvel út. Í nagladekkjunum stóð Michelin X-Ice North4 sig best með 87 stig. Í humátt á eftir komu Continental IceContact 3 og Nokian Hakkapeliitta.
Rýna vel í niðurstöðurnar til að finna öruggasta dekkið
Eins og í könnuninni í fyrra eru það Continental, Nokian og Michelin sem raða sér í efstu sætin. Þessi framleiðendur hafa langa reynslu að baki sem skilar að lokum góðri framleiðslu og góðri vöru neytendum til handa.
Prófanir á naglalausum sem negldum dekkjum fóru fram á fjórum mismunandi flötum og á öllum tímum dagsins til að tryggja jöfn skilyrði. Bridgestone og Michelin koma inn með nýja framleiðslu sem kom vel út úr könnuninni. Suður kóreski framleiðandinn Nexten kom einnig inn á markaðinn með nýtt dekk. Til að tryggja að aðstæður fyrir mælingarnar séu sem jafnastar eru allar prófgreinar byggðar á mælingum úr mörgum endurtekningum. Dekkin eru valin í öfugri röð til að bæta fyrir breytingar á veðri og aðstæðum. Það sem kom fram og hefur reyndar gerst í öllum öðrum könnunum að ekkert dekk getur verið best í öllu.
Það þarf ekki að vera að dekkið sem skoraði hæst í könnuninni sé besti kosturinn fyrir þig. Fyrir þá sem keyra oftast á söltuðum og blautum vegum og eru sjaldan á snjó eða hálku kom Goodyear vel út úr könnuninni. Lögð er á það áhersla að ökumenn fari vel yfir niðurstöðurnar til að sérhver geti fundið öruggasta dekkið fyrir þær aðstæður sem hann keyrir venjulega við.
Akstureiginleikar:
Aksturseiginleikar og vegrip í akstri er metið með tímatökum á brautum sem eru ýmist ísilagðar, snjóþaktar eða auðar og þá bæði þurrar og votar. Margir ökumenn aka bílunum til skiptis og markmiðið er að ná sem stystum brautartíma þannig að ökulagið er hranalegt og samsett úr hröðun, hemlun og hröðum akstri í beygjum. Lokaeinkunnir eru reiknaðar út frá meðaltali brautartíma allra ökumanna.
Veggnýr:
Ökumenn mæla og meta veggný hjólbarðanna eftir akstur á grófu vegyfirborði. Þeir meta veggnýinn bæði sem ökumenn og farþegar í aftursæti. Niðurstaðan er meðaltal mælinga og einkunna bílstjóranna. Þetta er blindpróf.
Hemlun:
Hemlunarvegalengdir eru mældar á snjó, ís, votu og þurru malbiki. Hvert hemlunarpróf er margendurtekið (15-20 sinnum) við mismunandi hitastig yfir nokkurra daga tímabil. Á ís er hemlað af 20 km hraða niður í 5. Í snjó er hemlað frá 35 km hraða niður í 5. Á votu og þurru malbiki er hemlað af 80 km hraða niður í 5. Hemlunarprófanir á snjó og ís fara fram bæði utan og innanhúss við mismunandi hita- og rakastig sem þar má stjórna og þannig lágmarka áhrif veðurs á niðurstöðu.
Hröðun:
Grip dekkjanna á ís og í snjó er mælt með því að ná upp mestri mögulegri hröðun bílsins. Tími hröðunarinnar á tilteknu hraðabili er síðan mældur. Á ís er hraðabilið 5-20 km/klst. Í snjó er það 5-35 km/klst. Þetta er margendurtekið yfir nokkura daga tímabil, bæði utan- og innanhúss.
Rásfestan:
Rásfestan er metin með akstri á snjó eða á ísilögðu vegyfirborði með skröpuðum rásum. Þrír ökumenn meta hver í sínu lagi rásfestuna í þessum aðstæðum og einkunnin meðaltal af mati þeirra. Þetta er einnig blindpróf. Ökumenn sem annast pófunina vita ekki hvaða dekkjategund er undir hverju sinni.
Aksturstilfinning:
Ökumenn gefa hverri dekkjategund persónulega einkunn fyrir það hversu stöðugt og öruggt þeim fannst það í akstri. Það skiptir máli hvernig þeim fannst dekkið hegða sér í mismunandi akstursaðstæðum. Þetta er blindpróf sem þýðir að prófunarökumennirnir vita aldrei hvaða tegund er undir bílnum hverju sinni.
Mynd: NIKLAS CARLE Prófunarbrautin fyrir utan Alvsbyn er notuð af fjölda dekkja- og bílaframleiðenda á ári hverju en Saab var fyrsti bílaframleiðandinn sem tók hana í notkun á níunda áratugnum.
1
Michelin X-ICE North 4
Fjöldi nagla: 255
Hörkustig (Slitflötur): 58
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 46, 2019
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: N1
Verð per. dekk: 31.990 kr.
87 STIG
Í slitfleti Michelin X-Ice af þeirri hjólbarðastærð sem um er fjallað í þessari prófun (205/60 R16) eru hvorki fleiri né færri en 255 naglar til að grípa í ísinn, eða alls 1.020 naglar í dekkjaganginum. En þessir naglar eru bæði minni og léttari en í dekkjum keppinautanna en þrátt fyrir fjöldann er það hljóðlátast nagladekkjanna.
En naglarnir virka sannarlega eins og til er ætlast og tryggja hámarksgrip í öllum akstri á ís. X-Ice hefur einnig besta veggripið í snjó þótt naglar komi lítt eða ekkert við þá sögu til eða frá. Í almennum akstri í snjó má þó merkja að hliðargrip mætti vera eilítið stöðugra og í beygjum má merkja undirstýringu. Að öðru leyti er það bæði sérlega rásfast og með minnstu núningsmótstöðuna sem þýðir að það krefst minnstu orkueyðslunnar. Eitt af því fáa sem finna má að dekkinu er að það er síðra í bleytu en öðru og er full fljótt að fljóta upp og missa gripið.
Að öllu samanlögðu þó, er þetta besta neglda vetrardekkið í ár.
Kostir: Veggrip á ís, Rásfesta á auðu malbiki
Ókostir: Flotun, Hemlun í bleytu
3
Fjöldi nagla: 196
Hörkustig (Slitflötur): 54
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 41, 2019
Framleiðsluland: Finnland
Söluaðili: MAX1
Verð per. dekk 28.960 kr.
Finnsku vetrardekkjasérfræðingarnir hjá Nokian standa sig sem fyrr og eru nú með dekkið sem best grípur í ísinn og með þeim bestu í snjó. Í hvorutveggja finnur ekillinn það strax hvað má bjóða bílnum, hvenær veggripið er við það að tapast og hvenær það tapast alveg í beygjum og í hemlun og hröðun. Aksturinn í vetrarfæri verður því sérlega öruggur og fyrirsjáanlegur.
Dekkið er þannig einskonar hreinræktað vetrardekk sem er í essinu sínu við þannig akstursaðstæður. Það hefur aldrei verið neitt létt að sameina bestu eiginleika vetrardekka með bestu aksturseiginleikum á marauðum vegum. Nokian Hakka. 9 er þrátt fyrir það ekki svo afleitt á auðum vegi, ekki síst í bleytunni. Helsti veikleiki þess er fyrst og fremst stöðugleikinn á auðu. Rásfestan er ekki sú allra besta svo það sé sagt.
En þrátt fyrir það öruggt í ,,elgsprófinu” þegar snöggbeygt er fram hjá hindrun og þannig líkt eftir hættu sem upp getur komið í akstri ef einhver eða eitthvað kemur skyndilega og óvænt í veg fyrir bílinn.
Loks skal nefnt að þetta er eitt háværasta neglda dekkið í þessari prófun.
Kostir: Gott veggrip á ís og í snjó. Stöðugt í beygjum.
Ókostir: Rásar á þurrum auðum vegi, Veggnýr.
2
Continental Icecontact3
Fjöldi nagla: 190
Hörkustig (Slitflötur): 60
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 41, 2019
Framleiðsluland: Þýskaland
Söluaðili: BJB
Verð per. dekk: 29.005 kr.
IceContact3 er gjörbreytt dekk samanborið við það neglda Continental dekk sem prófað var í vetrardekkjakönnun síðasta árs. Það eru ekki bara breyttir og öðruvísi naglar heldur er gúmmíblandan í slitfeltinum líka breytt. Hún var mjög mjúk í fyrra en er nú mun stinnari.. Eiginleikar þessa nýja eru auk þess miklu jafnari hvert svo sem færið er. Á snjó og ís það þó heldur síðra en en þau bestu þar – Michelin og Nokian, en þó mjög gott engu að síður.
Á auðum vegum er það hins vegar mun betra en síðasta árs Continentaldekkið og í bleytu er það að þessu sinni best ásamt Pirelli.
Hinir óverulegu veikleikar þess í vetrarfærinu (snjó og ís) nægja þó til þess að toga það niður úr fyrsta sætinu í ár og hreppa silfrið í stað gullsins.
Kostir: Öruggt í akstri í öllum aðstæðum
Ókostir: Lítillega síðra grip á ís en hjá þeim allra bestu
4
Fjöldi nagla: 196
Hörkustig (Slitflötur): 58
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 4, 2020
Framleiðsluland: Suður Kórea
Söluaðili: Sólning
Verð per. dekk 22.990 kr.
Hankook I*Pike var hefur verið uppfært síðan í fyrra og það sem breyst hefur frá könnun síðasta árs er fyrst og fremst það að hemlunareiginleikar á auðum vegi hafa batnað umtalsvert.
Hankook I*Pike er fyrst og fremst vetrardekk og í vetrarfdærinu nýtur það sín jafnbest, hvort heldur á ís eða í snjó.
Þetta er snaggaralegt vetrardekk sem svarar snöggt stefnubreytingum og án vandræða, en er fyrir bragðið ,,sportlegra” og ekki eins fyrirsjáanlegt og t.d. Nokian og þar með ekki eins auðvelt í akstri.
Aksturseiginleikar þess á auðum vegum eru nokkuð misjafnir eftir því hvernig undirlagið er og hvort vegur er þurr eða blautur. Þetta má þó ekki skilja sem svo að það sé á einhvern hátt óöruggt í akstri heldur fremur að það sé sumpart dálítið sportlegt í akstri hvort heldur sem er á auðum vegum eða snjóugum og ísilögðum.
Hankook er að öllu samanlögðu fyllilega áhugavert vetrardekk, ekki síst í ljósi þess að verð á því er ívið lægra en á flestum hinna.
Kostir: Gott grip í öllu vetrarfæri og hemlar vel á malbiki.
Ókostir: Aksturseiginleikar geta virkað sem losaralegir í hröðum og harkalegum akstri.
Nokian Hakkapeliitta 9
Hankook i*Pike RS2
Nagladekk
Fjöldi nagla: 190
Hörkustig (Slitflötur): 59
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 45, 2019
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: VIP Dekk
Verð per. dekk 23.990 kr.
Nordman Nordman 7
Fjöldi nagla: 128
Hörkustig (Slitflötur): 58
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 46, 2019
Framleiðsluland: Rússland
67 STIG
IceZero2 er nýjung í þessari könnun sem aldrei hefur verið prófuð hér fyrr. Því miður eru þessi fyrstu kynni dálítið blendin.
Grip þess í ísinn er því miður meðal þess lakasta í þessari prófun. Naglarnir standa styttra út úr holum sínum en á nokkru hinna nagladekkjanna, en þótt svo sé, skýrir það ekki til fulls hversu mikið lakara hálkugrip þessa dekks eru í samanburði við hin. Á ísnum voru það alltaf afturhjólin sem fyrst misstu gripið og einmitt það eiga hinir venjulegu ökumenn einna erfiðast að ráða við.
IceZero 3 hefur mun betra grip í snjó þótt það standi hinum nokkuð að baki í því efni og þurfi ekki mikið til að skrika í snjónum. En á auðum vegi er IceZero með þeim allra bestu. Þar sýnir dekkið sínar bestu hliðar. Hemlunarvegalengdir eru stuttar á þurrum vegi sem blautum og það flýtur ekki svo auðveldlega upp í vatnsaga enda er það besta dekkið hvað varðar flotun.
En vegna frammistöðunnar í hinu hreina kalda vetrarfæri nær það ekki ofar en í fimmta sætið í þessari könnun.
Kostir: Aksturs- og hemlunareiginleikar á auðu malbiki
Ókostir: Lélegt grip á ís. Gjarnt á að skrensa á ís og í snjó.
7
Toyo observe Ice-Freezer
Fjöldi nagla: 130
Hörkustig (Slitflötur): 66
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 35, 2019
Framleiðsluland: Malasía
Söluaðili: Nesdekk
Verð per. dekk 23.990
Ice-Freezer frá Japan er í góðu meðallagi í hreinni vetrarfærð þótt það nái ekki að skara framúr í neinum vetrarfærðarþáttanna. Dekkið hefur næst harðasta slitflötinn af dekkjunum í þessari könnun. Þá eru naglarnir í því eru í færra lagi miðað við hin.
En það má þó eiga það að grip þess í snjó og á ís er viðunandi og það gefur ökumanni aðdraganda og ráðrúm til að bregðast við vegna þess að veggripið veikist stig af stigi. Það er þannig frekar auðvelt í akstri í snjónum og á ísnum þrátt fyrir að veggrip sé ekki upp á það besta. En þar með eru hinir afgerandi kostir nánast upp taldir.
Á auðu malbiki dregur það einkunnirnar mjög niður hversu gripið er veikt í beygjum enda þótt að ekki sé hægt að kvarta undan rásfestu í almennum akstri. Þetta þýðir að í neyðarbeygju fram hjá hindrun er dekkið í lægra meðallagi.
Á nokkrum mismunandi hraðastigum á auðum vegi kemur óþægilegur og truflandi hávaði frá nöglunum.
Þar sem þeir þættir sem dekkið spjarar sig vel eru svo fáir, draga allir hinir þættirnir lokaeinkunnina svo niður að það nær einungis sjöunda sæti.
Kostir: Aðvarar ökumann í tæka tíð vegna þess að það tapar veggripinu stig af stigi.
Ókostir: Fáir afgerandi kostir. Veikt grip í snjó og á ís.
Söluaðili: MAX1
Verð per. dekk 21.390 kr.
Nordman er, eins og sumir vita, ódýrara undirmerki Nokian og þetta neglda dekk er í raun hið gamla Nokian Hakkapeliitta 7 sem framleitt er áfram undir nýju nafni.
Aldurinn má að nokkru merkja á því hversu naglarnir í því eru fáir, eða einungis 128 en í nýrri dekkjunum er þeir frá 190 talsins.
Þegar Nordman er borið saman við hið nýja Nokian Hakkapeliitta 9 sést um leið hvernig í nýju gæðadekkjunum hefur tekist að sameina í einu og sama dekkinu þá mörgu og ólíku eiginleika sem ráða við misjafnt vetrarfæri, en ekki bara einungis snjóinn og ísinguna.
Þetta staðfestir í raun Nordman 7 ágætlega. Það er nefnilega ágætt í vetraraðstæðunum snjó og hálku en er síst í þessari könnun á auðum vegi hvort heldur þurrum eða blautum Þar að auki er það með þeim háværustu og orkufrekustu í akstri.
Kostir: Gott veggrip í hreinni vetrarfærð.
Ókostir: Langar hemlunarvegalengdir á auðum vegum.
Hávært og orkufrekt
Fjöldi nagla: 134
Hörkustig (Slitflötur): 70
Hraðaþol: T(190 km/h)
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 22, 2019
Framleiðsluland: Kína
Söluaðili: Nesdekk
Verð per. dekk 16.990 kr. (205/55R16)
GT Radial er lítt þekkt vörumerki á norðlægum slóðum. Það er þó framleitt af stórri dekkjasamstæðu sem heitir Giti Tire með höfuðstöðvar í Singapore sem er í hópi tíu stærstu hjólbarðaframleiðenda veraldar.
Og svipað með okkur sem þekkjum lítið sem ekkert til þessa framleiðanda þá virðist sem verkfræðingar GT Radial viti ámóta lítið um þær kröfur sem gerðar eru til vetrarhjólbarða á norðlægum slóðum.
Gúmmíblandan í slitfleti Icepro 3 er næstum eins hörð og í sumarhjólbarða og þar með hafnar það neðst í öllum prófunarþáttum á snjó og ís. Þar tapar það algerlega veggripi mjög snögglega og án minnsta fyrirvara.
Að öllu samanlögðu er þetta eitt verst samsetta vetrardekk sem hugsast getur hvað varðar flesta eiginleika þess. Í beygjum framhjá hindrun er það varasamt vegna þes hve það tapar veggripinu snögglega. En það hefur einn kost. Hann er sá að þar hefur það stystu hemlunarvegalengdina. En það er bara ekki nóg.
Kostir: Stuttar hemlunarvegalengdir á auðu malbiki
Ókostir: Lélegt grip á ís og í snjó. Lætur illa að stjórn í neyðarbeygjum vegna þess hversu fyrirvaralaust það tapar veggripi.
Pirelli Ice Zero 2
GT Radial Icepro 3
Nagladekk
Michelin og Nokian hafa besta ísgripið og Hankook það þriðja besta. GT Radial er áberandi slakast.
Meðaltal 24 mælinga. Nokian og Michelin eru í sérflokki í þessari grein en GT Radial og Pirelli verma botninn.
Brautartímar á akstursbraut. Mælt meðaltal þriggja hringferða um ísi lagða brautina. Michelin og Nokian í sérflokki en GT Radial og Toyo á botninum.
Mælt meðaltal 12 tilrauna á hverri hjólbarðategund. Pirelli sýnir hér vel heppnað snjómynstur og sömuleiðis Continental og Michelin. Snjómynstur Toyo sýnir sig hins vegar vera síst.
Hemlunartími er meðaltími 24 umferða á hverja hjólbarðategund. Michelin og Nokian eru með besta hemlunargripið í snjónum, GT Radial með það sísta en Toyo og Pirelli aðeins skárri.
Brautartímar eru meðaltal sex umferða um snjóþakta brautina fyrir hverja dekkjategund. Nokian er fljótast í förum um brautina, en GT Radial er lengst.
Hér er GT Radial efst og það staðfestir einu sinni enn hversu erfitt það er að sameina sterkt veggrip í snjó og á ís við hið sama á votu malbiki.
GT Radial stendur sig best en Nordman (ódýrara undirmerki Nokian) síst.
Taflan sýnir hraða bílsins þegar dekkin missa gripið í vatnsaga (,,plana”).
Hér er það Pirelli sem lengst heldur veggripinu og hve mikill munur er milli bestu og sístu vetrardekkja hvað þennan þátt varðar.
Hemlun
Mynd: NIKLAS CARLE
Nexen Winguard Ice Plus WH43
Hraðaþol: T(190 km/h)
Hörkustig (Slitflötur): 57
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 49, 2019
Framleiðsluland: Suður Kórea
Söluaðili: Sólning
Verð per. dekk 16.990 kr.
Þetta nýja óneglda vetrardekk frá S. Kóreu sannar að framleiðandinn er á miklu skriði. Á óvart kemur hversu vel það stendur sig í bæði hröðun og hemlun í snjó og þó sérstaklega á ís þar sem það reyndist best.
Gripið í beygjum er heldur veikara og undirstýringar gætir en það þó ekki alslæmt því að afturhluti bílsins er þá jafnframt ekki að skrensa svo mikið. En að öllu samanlögðu eru það aðeins Nokian og Continental sem fá fleiri stig í snjó og á ís heldur en Nexen.
Hraðaþol: H(210 km/h)
Hörkustig (Slitflötur): 59
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 2, 2020
Framleiðsluland: Kína
Söluaðili: N1
Verð per. dekk 30.990 kr.
Þetta nýja X-Ice Snow er eins og hið eldra X-Ice 3 sem þetta leysir af hólmi, svokallað háhraðadekk sem þolir yfir 200 km hraða á klst. Það þýðir að í akstri er það best á auðu og í þurrki.
Núningsmótstaða þess og þar með orkueyðsla er sú lægsta í þessu prófi. Hins vegar er hemlunarvegalengd í bleytu talsverð. Grip þess á ís og snjó er gott bæði í hemlun og hröðun (í akstri beint áfram).
En því miður koma þessir góðu kostir niður á eiginleikum Nexen á auðu malbiki. Á þurru er það ókostur hversu stýringin virðist losaralegt og dekkið laust í rásinni og hversu hemlunarvegalengdin er mikil. Í bleytu vill það skrensa og þá er það afturhlutinn sem fyrst missir veggripið.
En að öllu samanlögðu er Nexen besta af nýju vetrardekkjategundunum og verðskuldar fyllilega fimmta sætið í könnuninni.
Kostir: Veggrip í vetrarfæri er gott. Lágvært.
Ókostir: Langar hemlunarvegalengdir á auðu og slök rásfesta á þurru malbiki. 71 STIG
Hraðaþol: T(190 km/h)
Hörkustig (Slitflötur): 52
Burðarþol: 96
Framleiðsludags: Vika 26, 2019
Framleiðsluland: Rússland
Söluaðili: -
Verð per. dekk -
Blizzak Ice leysir nú af hólmi hið eldra WS80. Eins og fyrirrennarinn er það með einn mýksta sliftlötinn (seigjustig 52) og það skilar því góðum árangri í alvöru vetrarfæri eins og vænta mátti.
Að vísu er veggripið á ís slakara en hjá þeim sem þar eru best, en á bæði ísnum og í snjó er það létt í akstri og síðast en ekki sístt gefur það vel til kynna þegar þolmörk þess nálgast.
Hið nýja Blizzak hefur fengið ósamhæft slitmynstur (ev svo má að orði komast) þannig að hliðar barðanna eru með sérmerktar sem inn- eða úthliðar svo að því þarf að gæta þegar skipt eru um dekkjagang. Það hefur í för með sér betra hliðargrip sem er kostur en ókostur er að dekkið ryður ekki eins vel vatni frá sér. Þannig kemur í ljós að Bridgestone er síst í þessu prófi á votu malbiki.
Á þurru auðu malbiki er það hins vegar full mjúkt og að sama skapi ónákvæmt í stýri og reikult í akstri.
Veikleikar þess á auðum (þurrum sem votum) vegi draga það niður þannig að það verður að gera sér sjöunda sætið að góðu.
Kostir: Létt og auðvelt í akstri í snjó og grípur vel.
Ókostir: Flotun og grip í bleytu.
En í beygjum er vetrargripið síðra en hjá þeim bestu þar. Það er líka erfiðara að greina þolmörkin áður en það missir gripið, heldur en hjá mýkri vetrardekkjunum. Sömu sögu er að segja um beygjur í bleytu.
Því er það svo að þrátt fyrir stöðugleika og rásfestu á auðu, lágan orkueyðslustuðul og stuttar hemlunarvegalengdir á þurrum vegum þá dregur slakt beygjugrip í vetrarfæri og bleytu það niður í einkunn sem aðeins fleytir því inn í sjötta sætið.
Kostir: Rásfesta og ökutilfinning á malbiki Hemlun á ís og snjó.
Ókostir: Slakt grip í beygjum. Hemlun á votu malbiki.
Firemax / Nereus FM805+/NS805+
Hraðaþol: T(190 km/h)
Hörkustig (Slitflötur): 57
Burðarþol: 92
Framleiðsludags: Vika 22, 2019
Framleiðsluland: Kína
Söluaðili: -
Verð per. dekk
Lágverðshjólbarðinn Firemax/Nereus FM805+/NS805+ er alls ekki allra versta vetrardekk sem hugsast má og stendur mörgum öðrum og dýrari dekkjum mun framar – dekkjum sem ekki hafa náð inn í þessa könnun nú. En samanborið við þau bestu er það þó góður hálfdrættingur.
Þótt nokkuð vanti upp á hjá því hvað varðar hröðun og hemlun á ís og snjó þá hafa mörg lágverðsdekk sem áður hafa verið tekin með í þessar kannanir okkar, staðið sig verr en þetta, ekki síst í beygjum á ís þar sem Firemax er ágætt þótt eitthvað vanti upp á að það gefi ökumanni til kynna hvar þolmörk þess í ísakstri - og þá ekki síður í snjó – liggja.
Það sem helst er aðfinnanlegt er það hversu upp á veggripið á auðum vegum vantar, sérstaklega þegar beygt skal frá hindrun. Í slíku verður það afar óstöðugt. Þótt það hemli vel á auðum vegi er neðsta sætið verðskuldað.
Kostir: Nothæft veggrip í snjó og ís. Góð hemlun á auðu Ókostir: Skortir rásfestu á malbiki. Ótraust í akstri þegar skrikmörkum er náð.
Michelin X-ICE Snow
Bridgestone Blizzak Ice
STIG
54 STIG
Mynd: NIKLAS CARLE
Meðaltal tekið af 12 endurtekningum. Nokian og Continental stóðu sig best en Firemax lakast.
mælt í sekúndum
Tímamælingin er meðaltal 12 endurtekninga. Athyglisvert er hve munur milli besta og sísta hjólbarðans er lítill. Pirelli – 4.15 sek en Firemax 4,30 sek.
Tímarnir eru meðaltal 24 endurtekninga fyrir hverja hjólbarðategund. Nexen er afgerandi best, þá Continental, en munurinn minni milli þeirra sem eru þar fyrir neðan.
Brautartímar eru meðaltal þriggja umferða um ísi lagða brautina á hverri hjólbarðategund. Continental er efst. Firemax kemur á óvart en Goodyear olli vonbrigðum.
Goodyear þarf stystu vegalengdina til að næstum stöðvast (34,41 m). Bridgestone krefst hins vegar þeirrar lengstu af ónegldu dekkjunum (43,12 m). Í þessu kemur Firemax óvænt inn í annað besta sætið.
Hemlunarvegalengdir eru meðaltal 24 endurtekninga. Eins og í hröðunarprófinu í snjó mælist ekki stórvægilegur munur milli dekkjanna. Nexen 11,3 m, Firemax 11,7 m.
Brautartímar eru meðaltal þriggja umferða um ísi lagða brautina á hverri hjólbarðategund. Continental er efst. Firemax kemur á óvart en Goodyear olli vonbrigðum, einkanlega fyrir snögg umskipti milli yfir- og undirstýringar.
Bridgestone þarf stystu hemlunarvegalengdina (28,69 m) en Nexen þá lengstu (32,28 m)
Goodyear er hér með yfirburði. Það flýtur upp (,,planar”) ekki fyrr en á 73,3 km hraða í 7,7 millimetra djúpu vatni. Michelin er í öðru sætinu með 65,3 hraða. Bridgestone er það sem er fyrst til að ,,plana” og gerir það á aðeins 61,4 km hraða.