Skip to main content

Vetrardekkjakönnun 2026

Page 1

VETRARDEKKJAKÖNNUN

2026


Vetrardekkjakönnun 2026 Vetraraðstæður reyna á alla þætti bílsins, en engir þeirra skipta jafnmiklu máli fyrir öryggið og dekkin, sem eru eina snerting bílsins við veginn. Valið á milli negldra og ónegldra vetrardekkja er árleg ákvörðun margra ökumanna og ræðst mjög af aksturslagi, búsetu og daglegu akstursumhverfi. Í árlegri vetrardekkjakönnun norska bifreiðaeigendafélagsins NAF og tímaritsins Motor eru helstu dekkin á markaðnum prófuð við krefjandi vetraraðstæður: á glærum ís, harðpökkuðum snjó og blautu og þurru malbiki. Prófanirnar fóru fram í Svíþjóð og Finnlandi. Könnunin sýnir að nagladekk bera enn höfuð og herðar yfir ónegld dekk þegar kemur að gripi á ís. Þau tryggja stysta hemlunarvegalengd í hálku og veita mest svigrúm þegar óvæntar aðstæður skapast. Ókostir eru meiri veggnýr og aukið slit á malbiki, ásamt slakara gripi á blautu yfirborði.

Prófanir fóru fram í Svíþjóð og Finnlandi.

Ónegld vetrardekk hafa tekið miklum framförum á síðustu árum. Þau gefa gott grip á snjó og ágætt grip á ís, sérstaklega í miklu frosti, og skara fram úr í hljóðlátum og þægilegum akstri á auðum vegum. Fyrir þá sem aka mest innan og í kringum þéttbýli, þar sem götur eru oftast ruddar og saltaðar, eru ónegld dekk ákjósanlegur og umhverfisvænni kostur. Hvort sem valið er neglt eða óneglt sýnir könnunin glöggt að munurinn á bestu og lökustu dekkjunum er mikill. Rétta dekkið getur skipt sköpum þegar á reynir. Dekkið sem skorar hæst þarf ekki að vera besti kosturinn fyrir þig. Skoðaðu niðurstöður í hverjum prófunarlið fyrir sig og veldu dekk út frá þeim aðstæðum sem skipta þig mestu máli.


Prófanir á ís og snjó voru gerðar á VW Tiguan 1.5 TSI í Älvsbyn í Norður-Svíþjóð.

Ónegld dekk Sum dekk henta ekki okkar aðstæðum Langt frá því öll ónegld vetrardekk eru gerð fyrir norrænt veðurfar. Það kemur skýrt í ljós í könnun ársins, þar sem sjö norræn ónegld dekk eru borin saman við eitt miðevrópskt. Prófuð var stærðin 215/65 R17, sem er algeng undir meðalstórum jepplingum. Miðevrópskt dekk á hálum ís Til samanburðar var tekið með Pirelli Cinturato Winter 3 úr miðevrópska flokknum. Dekkið hefur staðið sig vel á snjó í þýskum prófunum og er auk þess hagkvæmur kostur. Norræn ónegld vetrardekk eru sérstaklega þróuð fyrir hörðustu vetraraðstæður, með glærum ís og miklu frosti. Bæði gúmmíblandan og mynstrið eru mýkri til að gefa hámarksgrip í miklum kuldum þar sem snjór hefur þjappast niður og ísing hefur myndast. Flestir dekkjaframleiðendur bjóða einnig svokölluð miðevrópsk vetrardekk. Þau eru aðallega seld á meginlandi Evrópu og hönnuð fyrir mildari vetur, þar sem hraðbrautarakstur er aðalnotkunin. Afleiðingin er stífari bygging með meiri áherslu á stýrissvörun, hemlun og vörn gegn floti. Mikill munur Merkilega mikill munur er á gripi þessara dekkjagerða. Og sýnir það sig best þegar hitinn fer niður fyrir frostmark og ísing fer að gera vart við sig. Gripið í beygjum er

sérstaklega veikt og þegar dekkið sleppir tekur við langt skrið áður en ökumaðurinn nær aftur stjórn. Miðevrópska dekkið á einfaldlega ekki heima á ísilögðum vegum. Á toppnum berjast hins vegar fjögur vel þekkt norræn ónegld dekk um sigurinn í óvenjujafnri keppni. Stigamunurinn er lítill og niðurstöðurnar sýna hversu langt þróunin er komin. Enn má gera betur Bestu ónegldu vetrardekkin í dag sameina trausta vetrareiginleika og sífellt betri frammistöðu á auðum vegi. Þrátt fyrir það er enn rúm fyrir bætingu. Blautt malbik er enn akkillesarhæll norrænu dekkjanna. Einmitt þar sýnir miðevrópska dekkið styrk sinn, með háum flothraða og stuttri hemlunarvegalengd. Hvað á ég að velja? Fyrir þá sem aka mest í þéttbýli þar sem vegir eru oftar auðir þá getur miðevrópsk gerð í einstaka tilfellum verið betri kostur. En í flestum tilfellum þá henta hefðbundin norræn ónegld vetrardekk betur. Jafnvel innan norræna flokksins er munur sem oft snýst um ólíkar áherslur á grip á ís annars vegar og á blautum vegi hins vegar. Umsagnirnar gefa góða mynd af eiginleikum hvers dekks fyrir sig og ættu að nýtast við val á dekkjum sem henta notkun hvers og eins. Verum meðvituð um veikleika dekkjanna sem eru undir bílnum og högum akstri eftir aðstæðum.


Nagladekk Strangari kröfur til nagladekkja Framleiðendur þurfa að aðlaga sig að sífellt auknum kröfum hvað varðar áhrif og slit nagladekkja á vegi. Prófuð voru átta nagladekk í 13 liðum og eitt þeirra, sem fyrir fram þótti sigurstranglegt, var dæmt úr leik. Minna vegslit Ein helsta áskorun framleiðenda eru hertar kröfur um vegslit nagladekkja (A+), sem finnska samgöngustofnunin Traficom setur. Kröfurnar eru finnskar en hafa í reynd áhrif á allan norræna markaðinn, þar á meðal Ísland, þar sem framleiðendur þróa nagladekk sín eftir þeim. Því munu öll ný nagladekk fyrir fólksbíla sem framleidd eru frá 1. janúar 2027 þurfa að uppfylla þær. Naglar sem ganga inn og út Nokian hefur vakið mikla athygli fyrir nýja nagladekkið Hakkapeliitta 01 sem býr yfir nýrri tækni þar sem naglarnir eiga að skjótast út í kulda og dragast inn þegar hlýnar. Raunveruleikinn er ekki jafn dramatískur, en engu að

síður áhugaverður. Þegar naglinn lendir á þurru malbiki myndast hiti. Hitinn mýkir efnið undir naglanum svo að hann gengur örlítið inn í dekkið. Ekki mikið og ekki alveg, en nóg til að minnka útskotið og mýkja álag á veginn, sem dregur úr sliti. Að auki minnkar veggnýrinn. Í kulda, eða þegar ekið er á mýkri vetrarvegum í stað malbiks, minnkar núningshitinn og efnið stífnar. Þá ýtast naglarnir örlítið lengra út úr mynstrinu og gefa aukið grip á ís. Continental hefur einnig sett á markað nýtt nagladekk, IceContact 8, í tengslum við nýju reglurnar. Það var því miður ekki fáanlegt þegar prófanirnar hófust í febrúar 2026. Gerðu þitt eigið mat Þegar öll 13 hlutaprófin eru lögð saman taka þrjú dekk verðlaunasætin með skýrum hætti. Sigurvegarinn sannfærir, en ekki á öllum sviðum. Hugsaðu um hvað þú vilt fá út úr dekkinu og skoðaðu einstaka prófunarliði. Hverjar eru grunnkröfur þínar og hverju ertu tilbúinn að fórna? Besta dekkið í könnuninni er ekki endilega besta dekkið fyrir þig.


Mikilvæg atriði í prófuninni Ísprófanirnar vega þyngst í stigagjöfinni. Ræsing og hemlun á ís voru prófaðar innandyra við -4 til -6°C, þannig að aðstæður væru jafnar fyrir öll dekk. Akstur á ís fór fram á braut utandyra í frosti þar sem mældur var hringtími og ökumenn mátu jafnframt aksturstilfinningu.

Snjór Á snjó ná dekkin gripi með því að safna snjó í mynstrið og gúmmíblandan skiptir þá minna máli en á ís. Mæld var ræsing úr 5 í 35 km/klst, hemlun úr 35 í 5 km/klst og hringtími á snævi þakinni akstursbraut.

Blautt og þurrt malbik Hemlunarvegalengd var mæld úr 100 km/klst, bæði á þurru malbiki og malbiki með 1 mm vatnslagi. Aksturseiginleikar á auðum vegi voru metnir út frá stýristilfinningu, stöðugleika og snöggum undanbrögðum.

Flot Ekið er inn í 6 mm djúpt vatn með vaxandi hraða og skráður er hraðinn þegar drifhjólin byrja að missa grip.

Veggnýr Hávaði er mældur með desíbelmæli við höfuð ökumanns en huglægt mat ökumanna á hljóðinu vegur þyngst í einkunninni.

Eyðsla Eldsneytiseyðsla var mæld á jöfnum 70 km/klst hraða á hringbraut, alls 20 km á hvert dekk.

215/6 5R 1

Ís

7


Svona prófuðum við Ís og snjór Aksturspróf á ís og snjó fóru fram á prófunarbrautum utan við Älvsbyn í Norður-Svíþjóð í lok febrúar. Prófunarbílarnir voru Volkswagen Tiguan 1.5 TSI, annar fjórhjóladrifinn fyrir akstursprófanir og hinn framhjóladrifinn fyrir ræsingu og hemlun. ABS og stöðugleikastýring voru virk, en stöðugleikastýringin í sportstillingu til að draga fram eiginleika dekkjanna. Blautt og þurrt malbik Prófanir á þurrum og blautum vegi fóru fram á prófunarbrautum í Tampere í Finnlandi í lok apríl. Notaðir voru VW Tiguan R (aksturspróf og eyðslumæling) og Škoda Kodiaq 2.0 TDI 4x4 (veggnýr og hemlun). Hemlun og hröðun Allar hemlunar- og hröðunarmælingar hefjast og enda við 5 km/klst í stað kyrrstöðu, til að lágmarka skekkju af völdum ABS og spólvarnar. Viðmiðunardekk Á milli allra hlutaprófana er ekið á viðmiðunardekki. Það telur ekki til einkunnar heldur fangar breytingar á yfirborði brautarinnar. Allar mælingar eru leiðréttar miðað við það. Dekkjastærð Öll dekkin eru 215/65 R17 með hraðastuðul R (170 km/klst), T (190 km/klst) eða H (210 km/klst).


Stigagjöf og mat

Dekkin í prófinu

Stigakerfið er vigtað þannig að vetrareiginleikar vega þyngst. Hemlun og akstur á ís gefa allt að 15 stig hvor liður, hemlun og akstur í snjó og hemlun í bleytu allt að 10 stig og aðrir liðir allt að 5 stig.

Ónegld dekk

Eftir að einkunn er gefin (1–5) í hverri hlutaprófun er hún margfölduð í samræmi við vægi liðarins. Í sumum liðum, eins og aksturseiginleikum og veggný, byggir einkunnin einnig á huglægu mati ökumanna. Hámarksstigafjöldi er 100: ís 35, snjór 25, blautt malbik 20, þurrt malbik 10, eyðsla 5 og veggnýr 5. Einkunnaskali: 5 = Framúrskarandi 4 = Gott 3 = Miðlungi gott 2 = Ekki nógu gott 1 = Lélegt

Ís- og snjóprófanir voru gerðar á VW Tiguan

• • • • • • • •

Continental VikingContact 8 Goodyear UltraGrip Ice 3 Hankook Winter i*cept IZ3 X Kumho WinterCraft Ice WS51 SUV Mazzini SnowLeopard 3 Nokian Hakkapeliitta R5 SUV Pirelli Ice Friction Pirelli Cinturato Winter 3 (miðevrópskt)

Nagladekk • • • • • • • •

Nokian Hakkapeliitta 01 SUV Goodyear UltraGrip Arctic 2 Michelin X-Ice North 4 Pirelli IceZero 2 Nordman North 9 SUV Nankang SW-9 IceActiva Grip2 SUV Kumho WinterCraft Ice Wi32 Bridgestone Blizzak Spike 3 (dæmt úr leik)

Niðurstöðurnar gilda fyrir stærðina 215/65 R17. Röðunin getur verið önnur í öðrum stærðum.


Ónegld vetrardekk 1

2

CONTINENTAL VIKINGCONTACT 8

Hraða/burðarþol: 103 T Hörkuþol (Shore): 53 Mynsturdýpt: 8,1 Framleitt (vika/ár): 46/25 Framleiðsluland: Þýskaland Söluaðili: Verð á eitt dekk:

93

STIG

PIRELLI ICE FRICTION

Hraða/burðarþol: 103 H Hörkuþol (Shore): 54 Mynsturdýpt: 7,8 Framleitt (vika/ár): 42/25 Framleiðsluland: Kína Söluaðili: Verð á eitt dekk:

92

STIG

Sigurvegari án veikleika.

Best allra í hálum beygjum.

Continental er ríkjandi meistari og sýnir enn á ný hvers vegna dekkið á heima í allra fremstu röð.

Nýjasta norræna óneglda vetrardekkið frá Pirelli vekur hrifningu og hefur fljótt skipað sér í fremstu röð.

Erfitt er að finna raunverulega veikleika. Gripið á ís er með því besta í prófuninni og við vetraraðstæður fer mikil geta saman við örugga og fyrirsjáanlega hegðun í beygjum. Stöðugleiki ásamt góðri stjórn á jaðri veggrips endurtekur sig á auðu malbiki. Akstursþægindin eru mikil og veggnýr lítill. Eina athugasemdin er að sum keppinautadekkin standa sig betur á blautu malbiki. Með öruggum aksturseiginleikum og jöfnum gæðum tryggir Continental sér enn einn nauman en verðskuldaðan sigur.

Í samanburði við sigurvegarann Continental vantar það bestu eiginleikana á ís, en í beygjum er Pirelli besta dekkið í prófuninni, bæði á snjó og ís. Stýringin er mjúk, svörunin bein og auðvelt er að ráða við dekkið þegar það nálgast jaðar veggrips. Ökumaðurinn fær skýr skilaboð sem skapa mikið traust undir stýri. Á auðum vegi skilar Pirelli einnig sterkum niðurstöðum, með stuttri hemlunarvegalengd, góðum stöðugleika og stýristilfinningu sem fá norræn ónegld dekk geta jafnað. Þetta er dekkið fyrir þá sem aka oft á auðu malbiki en vilja ekki gefa eftir í vetrareiginleikum.

Kostir: Auðstýrt undir álagi, gott vetrargrip, lítill veggnýr. Ókostir: Sum önnur dekk eru betri á blautu malbiki.

Kostir: Mikil akstursánægja, stutt hemlunarvegalengd á öllu undirlagi. Ókostir: Örlítið meira veltiviðnám en hjá þeim bestu.

Ræsing á ís (5)

5

Ræsing á ís (5)

4

Hemlun á ís (15)

15

Hemlun á ís (15)

12

Akstur á ís (15)

15

Akstur á ís (15)

15

Ræsing í snjó (5)

5

Ræsing í snjó (5)

5

Hemlun í snjó (10)

10

Hemlun í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

10

Hemlun í bleytu (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

10

Akstur í bleytu (5)

5

Akstur í bleytu (5)

4

Flot (5)

4

Flot (5)

4

Hemlun á þurru (5)

5

Hemlun á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

4

Akstur á þurru (5)

5

Eyðsla (5)

4

Eyðsla (5)

4

Veggnýr (5)

5

Veggnýr (5)

4

Samtals (100)

93

Samtals (100)

92


Ónegld vetrardekk 3

3

GOODYEAR ULTRAGRIP ICE 3

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

99 T 57 7,8 38/25 Pólland

90

STIG

NOKIAN HAKKAPELIITTA R5 SUV

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

103 R 52 8,5 03/26 Finnland

90

STIG

Sérlega gott á auðum vegi.

Öruggt og fyrirsjáanlegt dekk.

Goodyear er vel jafnvægt dekk sem stendur sig vel á hvaða undirlagi sem er.

Finnska dekkið heldur áfram að standa sig með þeim bestu í vetrarprófuninni og sýnir traust grip í beygjum.

Helsti styrkurinn er góð vörn gegn floti, sem gerir dekkið sérstaklega hentugt á auðum vegi. Lítill veggnýr, góð rásfesta og fín stýristilfinning á malbiki styrkja stöðu þess sem „þjóðvegadekk“ norræna flokksins. Um leið gefur Goodyear ekkert eftir í vetrareiginleikum. Hemlunarvegalengd á snjó og ís er stutt, þó að gripið í beygjum nái ekki alveg sama stigi og hjá bestu keppinautunum. Þegar gripið sleppir gerist það einnig nokkuð snögglega.

Nokian R5 er aldursforseti flokksins og hefur verið á markaði um nokkurt skeið. Bæði á ís og snjó er gripið öruggt og fyrirsjáanlegt. Uppfærð gúmmíblanda frá því í fyrra skilar merkjanlegum framförum á blautu malbiki, með styttri hemlunarvegalengd og betri stjórn.

Jöfn og há heildareinkunn dugar í sameiginlegt þriðja sæti.

Engu að síður eru sumir veikleikar dekksins enn til staðar. Stýristilfinning á þurru malbiki er nokkuð óljós og í floti nær dekkið ekki sama stigi og bestu keppinautarnir. Þegar allar undireinkunnir eru lagðar saman deilir Nokian þriðja sætinu með Goodyear.

Kostir: Flot, stýristilfinning á malbiki, vetrargrip, eyðsla.

Kostir: Aksturseiginleikar á vetrarvegum, hemlun á blautu og þurru malbiki.

Ókostir: Minna grip í beygjum en hjá þeim bestu.

Ókostir: Flot, stýristilfinning á malbiki.

Ræsing á ís (5)

5

Ræsing á ís (5)

5

Hemlun á ís (15)

15

Hemlun á ís (15)

12

Akstur á ís (15)

12

Akstur á ís (15)

15

Ræsing í snjó (5)

5

Ræsing í snjó (5)

5

Hemlun í snjó (10)

10

Hemlun í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

8

Akstur í snjó (10)

10

Hemlun í bleytu (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

8

Akstur í bleytu (5)

5

Akstur í bleytu (5)

5

Flot (5)

5

Flot (5)

3

Hemlun á þurru (5)

4

Hemlun á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

3

Eyðsla (5)

5

Eyðsla (5)

5

Veggnýr (5)

5

Veggnýr (5)

4

Samtals (100)

90

Samtals (100)

90


Ónegld vetrardekk 5

6

HANKOOK WINTER I*CEPT IZ3 X

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

PIRELLI CINTURATO WINTER 3

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

107 T 59 8,2 33/24 Suður-Kórea

68

STIG

107 H 65 7,9 18/25 Rúmenía

59

STIG

Ágætt dekk með akkillesarhæl.

Best allra á blautu malbiki, en …

Nýjungin frá Hankook sýnir að kóreski framleiðandinn er að bæta sig á sumum sviðum.

Miðevrópska samanburðardekkið í prófuninni sýnir glöggt að það er ekki hannað fyrir ís heldur fyrir blautan þjóðvegaakstur.

Fyrst og fremst er gripið á ís mjög gott, með stuttri hemlunarvegalengd. Gripið í beygjum nær þó ekki alveg stigi bestu dekkjanna. Bæði á ís og snjó á dekkið erfiðara með að halda jafnvægi á jaðri veggrips og getur það komið á óvart með snöggara skriði en bestu keppinautarnir. Á auðum vegi er upplifunin jákvæðari, með góðri stýristilfinningu og góðum stöðugleika í snöggum stefnubreytingum. Blautt malbik er hins vegar akkillesarhæll dekksins, með takmörkuðu gripi bæði við hemlun og í beygjum. Auk þess er veggnýr í hærra lagi. Heildareinkunnin skilar sæti fyrir miðju. Kostir: Hemlun á ís, stýristilfinning á auðum vegi, veltiviðnám.

Á ís er gripið í beygjum takmarkað og þegar það tapast er erfitt að ná því aftur. Á snjó er frammistaðan merkjanlega betri, þó að nákvæmni bestu norrænu dekkjanna vanti. Á blautu malbiki stendur dekkið sig virkilega vel. Þar er gripið mun betra en hjá norrænu dekkjunum. Hemlunarvegalengdin er stutt og flothraði hár. Stífari bygging veitir einnig stöðugleika á miklum hraða, en um leið meiri veggný og veltiviðnám. En á ís tapar dekkið miklu á móti norrænu dekkjunum. Kostir: Hemlun í bleytu, flot, stöðugleiki á malbiki. Ókostir: Missir grip snemma og snögglega á ís.

Ókostir: Grip í bleytu, tilhneiging til að skrika á snjó og ís.

Ræsing á ís (5)

5

Ræsing á ís (5)

2

Hemlun á ís (15)

12

Hemlun á ís (15)

6

Akstur á ís (15)

9

Akstur á ís (15)

3

Ræsing í snjó (5)

4

Ræsing í snjó (5)

3

Hemlun í snjó (10)

8

Hemlun í snjó (10)

6

Akstur í snjó (10)

6

Akstur í snjó (10)

4

Hemlun í bleytu (10)

4

Hemlun í bleytu (10)

10

Akstur í bleytu (5)

2

Akstur í bleytu (5)

5

Flot (5)

2

Flot (5)

5

Hemlun á þurru (5)

3

Hemlun á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

5

Eyðsla (5)

5

Eyðsla (5)

2

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

3

Samtals (100)

68

Samtals (100)

59


Ónegld vetrardekk 7

8

MAZZINI SNOWLEOPARD 3

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

KUMHO WINTERCRAFT ICE WS51 SUV

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

103 T 56 7,4 33/25 Kína

57

STIG

103 T 61 8,6 02/25 Kína

56

STIG

Afhjúpað á auðum vegi.

Gripið hverfur skyndilega.

Með nýja SnowLeopard 3 sýnir Mazzini greinilegar framfarir frá forveranum sem var prófaður árið 2022.

Kumho markaðssetur WS51 sem norrænt óneglt vetrardekk, en það hegðar sér frekar eins og miðevrópskt dekk.

Dekkin frá kínverska framleiðandanum með ítalskættaða nafnið eru enn langt frá þeim bestu í flokknum, en Mazzini sigrar þó þekktara merkið Kumho.

Harða gúmmíblönduna skortir það vetrargrip sem má vænta af dekkjum í þessum flokki. Dekkið stendur sig illa á ís og á snjó tapar Kumho vandræðalega fyrir miðevrópska samanburðardekkinu frá Pirelli.

Tiltölulega mjúkt gúmmíið nýtur sín best á vetrarvegum, þar sem Mazzini er fyrirsjáanlegt. Þegar gripið sleppir gerist það án óþæginda eða tilhneigingar til að skrika. Á auðum vegi koma veikleikarnir í ljós: sein svörun í stýri, mikil undirstýring og miðlungs stöðugleiki á miklum hraða. Veggnýr er þó vel innan marka. Áherslan á vetrareiginleika bjargar dekkinu frá neðsta sætinu. Kostir: Tiltölulega auðvelt að stjórna undir álagi á vetrarvegum.

Mest áhyggjuefni er að gripið í beygjum hverfur skyndilega og fyrirvaralaust. Á auðum vegi er upplifunin mun betri, með góðu gripi og stuttri hemlunarvegalengd, bæði á þurru og blautu malbiki. Að Kumho sé besta norræna dekkið í floti er ákveðin huggun, en heildareinkunnin skilar því samt neðsta sætinu. Kostir: Stöðugt á auðum vegi, góð vörn gegn floti.

Ókostir: Almennt lítið grip, slök hemlun á öllu undirlagi.

Ókostir: Nánast varasamt á ísilögðum og snævi þöktum vegum, gripið tapast skyndilega.

Ræsing á ís (5)

2

Ræsing á ís (5)

2

Hemlun á ís (15)

6

Hemlun á ís (15)

6

Akstur á ís (15)

6

Akstur á ís (15)

6

Ræsing í snjó (5)

4

Ræsing í snjó (5)

3

Hemlun í snjó (10)

8

Hemlun í snjó (10)

6

Akstur í snjó (10)

6

Akstur í snjó (10)

2

Hemlun í bleytu (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

10

Akstur í bleytu (5)

3

Akstur í bleytu (5)

3

Flot (5)

3

Flot (5)

5

Hemlun á þurru (5)

3

Hemlun á þurru (5)

3

Akstur á þurru (5)

2

Akstur á þurru (5)

4

Eyðsla (5)

4

Eyðsla (5)

4

Veggnýr (5)

4

Veggnýr (5)

2

Samtals (100)

57

Samtals (100)

56


RÆSING Á ÍS (SEK)

HEMLUN Á ÍS (MÍN)

AKSTUR Á ÍS (SEK)

Innandyra, -5 til -6°C. Hröðun 5–25 km/klst, meðaltal fimm lota.

Innandyra, -5 til -6°C. ABS-hemlun 25–5 km/klst, meðaltal tólf hemlana.

Skýjað, -13 til -17°C. Meðaltal átta hringja, aksturstilfinning metin með.

Continental

9,20

Continental

13,78

Pirelli Ice

69,2

Hankook

9,31

Goodyear

14,24

Nokian

69,6

Nokian

9,32

Pirelli Ice

14,46

Continental

69,9

Goodyear

9,43

Nokian

14,51

Goodyear

70,4

Pirelli Ice

9,80

Hankook

14,78

Hankook

71,6

Mazzini

11,14

Kumho

16,40

Mazzini

72,6

Kumho

11,62

Mazzini

16,69

Kumho

73,5

Cinturato

11,71

Cinturato

17,24

Cinturato

79,8

Hankook sýnir hæfni sína á ís með góðu gripi í ræsingu og er í hópi þeirra bestu. Mazzini, Kumho og miðevrópska dekkið eiga í erfiðleikum með gripið.

Continental og Goodyear stöðva best á ís og Hankook sýnir góða eiginleika. Miðevrópska dekkið er slakast en er ekki svo fjærri Kumho og Mazzini.

Pirelli fer best í gegnum beygjurnar, þar á eftir koma Nokian og Continental. Kumho kemur ökumönnum á óvart með því að missa gripið skyndilega. Miðevrópska dekkið á í vandræðum með grip í beygjum.

RÆSING Í SNJÓ (SEK)

HEMLUN Í SNJÓ (MÍN)

AKSTUR Í SNJÓ (SEK)

Skýjað, -7 til -15°C. Hröðun 5–35 km/klst, meðaltal tveggja lota.

Skýjað, -7 til -15°C. ABS-hemlun 35–5 km/ klst, meðaltal tveggja lota.

Skýjað, -11 til -13°C. Meðalhringtími sex hringja, aksturstilfinning metin með.

Goodyear

5,9

Pirelli Ice

11,8

Pirelli Ice

69,6

Continental

6,0

Nokian

11,8

Continental

69,9

Pirelli Ice

6,0

Goodyear

11,9

Nokian

70,3

Nokian

6,0

Continental

11,9

Goodyear

71,0

Mazzini

6,1

Hankook

12,3

Hankook

72,4

Hankook

6,1

Mazzini

12,4

Mazzini

72,9

Cinturato

6,4

Cinturato

12,6

Kumho

74,4

Kumho

6,6

Kumho

12,7

Cinturato

74,5

Á snjó ná dekkin gripi með því að safna snjó í mynstrið. Gúmmíblandan skiptir þá minna máli og munurinn er tiltölulega lítill miðað við ís.

Enginn afgerandi munur er heldur í hemlunarprófunum. Miðevrópska dekkið hefur örlítið lakara grip í snjó og Kumho er enn örlítið sleipara.

Pirelli er liprast í beygjum og öruggt á jaðri veggrips. Á snjó stendur miðevrópska dekkið sig vel og er auðveldara í stjórn en Kumho sem sleppir gripinu skyndilega.


FLOT (KM/KLST)

HEMLUN Á BLAUTU MALBIKI (MÍN)

AKSTUR Á BLAUTU MALBIKI (SEK)

Skýjað, +8 til +10°C. Hraði þegar drifhjólin spóla í 6 mm vatni.

Sól, +9 til +12°C. Hemlun 100–5 km/klst á malbiki með 1 mm vatni.

Sól, +9 til +11°C. aksturstilfinningu.

Cinturato

90,1

Cinturato

41,9

Cinturato

36,7

Kumho

72,4

Kumho

57,2

Nokian

39,7

Goodyear

71,4

Pirelli Ice

58,6

Continental

40,0

Pirelli Ice

70,3

Nokian

59,8

Goodyear

40,1

Continental

68,6

Mazzini

61,9

Pirelli Ice

40,6

Nokian

67,6

Goodyear

62,2

Kumho

41,6

Mazzini

67,0

Continental

63,3

Mazzini

41,9

Hankook

65,4

Hankook

66,9

Hankook

43,5

Byggir

aðallega

á

Miðevrópska dekkið er hannað fyrir hraðbrautarakstur í bleytu og það kemur greinilega í ljós í flotprófinu. Kumho og Goodyear eru best norrænu dekkjanna.

Miðevrópska dekkið sýnir yfirburði sína á blautu undirlagi. Af norrænu dekkjunum stöðva Kumho og Pirelli best en Hankook er langt á eftir hinum.

Af norrænu dekkjunum hefur Nokian nú besta gripið í beygjum í bleytu. Hankook er andstæðan og á í vandræðum með stýringu á blautu malbiki.

HEMLUN Á ÞURRU MALBIKI (MÍN)

AKSTUR Á ÞURRU MALBIKI

EYÐSLA (L/100 KM)

Sól, +3 til +6°C. Hemlun 100–5 km/klst, meðaltal sex hemlana.

Sól, +3 til +5°C. Huglægt mat (1–5) á stýri, stöðugleika og svigakstri.

Skýjað, +12 til +13°C. Jafn 70 km/klst hraði, alls 20 km á hringbraut.

Cinturato

42,7

Cinturato

5

Hankook

5,95

Pirelli Ice

46,7

Pirelli Ice

5

Goodyear

5,95

Continental

47,2

Hankook

5

Nokian

6,05

Nokian

47,8

Goodyear

5

Mazzini

6,10

Goodyear

49,2

Kumho

4

Pirelli Ice

6,15

Kumho

50,0

Continental

4

Continental

6,15

Mazzini

50,0

Nokian

3

Kumho

6,15

Hankook

50,9

Mazzini

2

Cinturato

6,45

Á þurru malbiki er munurinn á hemlunarvegalengd mun minni en í bleytu. Af norrænu vetrardekkjunum stöðva Pirelli og Continental best.

Mazzini veldur vonbrigðum með mikilli undirstýringu og lélegri rásfestu. Af norrænu dekkjunum eru Pirelli og Hankook stöðugust.

Norræn ónegld dekk rúlla létt og mjúkt mynstrið veitir litla mótstöðu. Munurinn er lítill, en stífara miðevrópska dekkið hefur meira veltiviðnám.

HEILDARSTIG (AF 100)

VETRARSTIG (AF 60)

VEGGNÝR

Samanlögð stig allra þrettán prófunarliða.

Samanlögð stig á ís (35) og snjó (25).

Breytilegt veður, +2 til +5°C. Mælt við höfuð ökumanns. Huglægt mat (H) vegur þyngst.

Continental

93

Continental

60

Huglægt (H)

dB 70

dB 110

Pirelli Ice

92

Nokian

57

Goodyear

5

64,2

69,1

Goodyear

90

Pirelli Ice

56

Continental

5

63,8

69,2

Nokian

90

Goodyear

55

Nokian

4

63,3

68,9

Hankook

68

Hankook

44

Mazzini

4

64,3

69,2

Cinturato

59

Mazzini

32

Pirelli Ice

4

63,5

69,2

Mazzini

57

Kumho

25

Hankook

3

64,7

69,8

Kumho

56

Cinturato

24

Cinturato

3

64,2

70,3

Kumho

2

65,8

70,9

Fjögur efstu dekkin eru nánast jöfn. Síðan kemur stórt stökk niður í Hankook, og miðevrópska dekkið ásamt Mazzini og Kumho reka lestina.

Hér sést munurinn á norrænum og miðevrópskum vetrardekkjum best. Continental fær fullt hús á ís og snjó en Pirelli Cinturato aðeins 24 stig af 60.

Nokian mælist lægst en hefur truflandi óm á vissum hraða. Þægilegust eru Continental og Goodyear. Harðara miðevrópska dekkið gefur frá sér dýptri tón en Kumho er greinilega háværast.


Negld vetrardekk 1

2

NOKIAN HAKKAPELIITTA 01 SUV

Hraða/burðarþol: 103 T Hörkuþol (Shore): 54 Mynsturdýpt: 8,9 Framleitt (vika/ár): 03/26 Framleiðsluland: Finnland Söluaðili: Verð á eitt dekk:

92

STIG

GOODYEAR ULTRAGRIP ARCTIC 2

Hraða/burðarþol: 103 T Hörkuþol (Shore): 56 Mynsturdýpt: 9,8 Framleitt (vika/ár): 46/25 Framleiðsluland: Pólland Söluaðili: Verð á eitt dekk:

89

STIG

Sigrar með einn mínus.

Traust heildarmynd.

Nýja Hakkapeliitta 01 býr yfir tækni þar sem naglarnir ganga örlítið inn í dekkið á auðum vegi. Naglarnir eru því tilbúnir í hálkuna en dragast lítillega inn við vissar aðstæður, meðal annars til að draga úr vegsliti.

Hið áreiðanlega UltraGrip Arctic 2 uppfyllir nýjar kröfur um vegslit. Það skýrir mögulega hvers vegna naglarnir standa minna út en á eldri dekkjum framleiðandans.

Vetrargripið er enn í fremstu röð og Nokian nýtir það til fulls í hálku. Uppfærð gúmmíblanda gefur gott grip í bleytu og nýja naglatæknin gerir kraftaverk fyrir veggnýinn. Á þurru malbiki verðum við hins vegar fyrir vonbrigðum. Stýringin er óljós, rásfestan lakari en áður og erfiðara er að staðsetja bílinn rétt í svigakstri. Nokian virðist hafa fórnað aksturseiginleikum á auðum vegi til að vega upp á móti því sem tapast í hálku. Heildarstigin skila dekkinu þó fyrsta sætinu. Kostir: Góð blanda af gripi á ís og í bleytu, lítill veggnýr.

Í ár standa naglarnir á Goodyear minnst út af öllum dekkjunum í prófuninni. Engu að síður skilar dekkið góðu gripi á ís, þótt það nái ekki alveg á toppinn. Heildarmyndin er þeim mun traustari. Á auðum vegi vekur Goodyear hrifningu með stuttri hemlunarvegalengd bæði á þurru og blautu malbiki og nær góðu jafnvægi milli vetrareiginleika og eiginleika á malbiki. Eina stóra athugasemdin er nokkuð óljós stýristilfinning á auðum vegi, ef til vill vegna þess að mynstrið er það dýpsta í prófuninni. Jafnar og traustar niðurstöður án áberandi galla skila góðri einkunn og öðru sætinu. Kostir: Gott jafnvægi og fáir ókostir.

Ókostir: Aksturstilfinning á malbiki.

Ókostir: Lítil nákvæmni í stýri.

Ræsing á ís (5)

5

Ræsing á ís (5)

4

Hemlun á ís (15)

15

Hemlun á ís (15)

12

Akstur á ís (15)

15

Akstur á ís (15)

15

Ræsing í snjó (5)

5

Ræsing í snjó (5)

5

Hemlun í snjó (10)

10

Hemlun í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

8

Hemlun í bleytu (10)

10

Hemlun í bleytu (10)

10

Akstur í bleytu (5)

4

Akstur í bleytu (5)

4

Flot (5)

4

Flot (5)

4

Hemlun á þurru (5)

4

Hemlun á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

2

Akstur á þurru (5)

4

Eyðsla (5)

3

Eyðsla (5)

4

Veggnýr (5)

5

Veggnýr (5)

4

Samtals (100)

92

Samtals (100)

89

14

FÍB-blaðið


Negld vetrardekk 3

4

MICHELIN X-ICE NORTH 4

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

103 T 57 8,2 35/25 Ítalía

81

STIG

PIRELLI ICEZERO 2

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

103 T 62 7,8 26/25 Rúmenía

75

STIG

Góðir almennir eiginleikar.

Mun betra á auðu malbiki en á ís.

Nagladekk Michelin eru ekki ný af nálinni en uppfylla samt nýjustu kröfur um vegslit.

IceZero 2 frá ítalska framleiðandanum Pirelli sker sig úr með slökum eiginleikum á ísilögðu undirlagi. Prófanir síðustu ára hafa sýnt það sama, óháð dekkjastærð.

Grip í ræsingu og hemlun á bæði ís og snjó er sannfærandi og með því besta í prófuninni. Gripið í beygjum er þó ekki í fremstu röð, sérstaklega í kröppum beygjum þar sem dekkið gefur helstu keppinautunum eftir. Á auðu malbiki vekur Michelin hrifningu með jöfnum eiginleikum í almennum akstri. Rásfestan er góð, stýristilfinningin eðlileg og bíllinn öruggur á meiri hraða. Jafnvægið milli vetrargrips og eiginleika á malbiki er augljós styrkur. Tiltölulega lakt grip í bleytu kostar hins vegar stig. Michelin endar í þriðja sæti, skammt á eftir þeim bestu.

Grip á vetrarvegum er gott, en við hemlun og í beygjum á ís er Pirelli langt á eftir næstu keppinautum. Dekkið sýnir hins vegar styrk á auðu undirlagi. Það er best allra í flotprófinu, hemlunarvegalengd á bæði þurru og blautu malbiki er stutt og stýristilfinning í beygjum er til fyrirmyndar. Fá norræn vetrardekk, negld eða ónegld, hafa jafn góða aksturstilfinningu á malbiki. Samt sem áður: slakt grip á ís ýtir Pirelli af verðlaunapallinum og niður í fjórða sæti.

Kostir: Hemlunarvegalengd á ís og snjó, stöðugleiki og aksturstilfinning á malbiki.

Kostir: Akstursánægja, stýristilfinning, flot, hemlun á auðum vegi.

Ókostir: Almennt slakt grip í bleytu, greinileg undirstýring í beygjum.

Ókostir: Lélegt grip á ís.

Ræsing á ís (5)

5

Ræsing á ís (5)

4

Hemlun á ís (15)

12

Hemlun á ís (15)

6

Akstur á ís (15)

12

Akstur á ís (15)

6

Ræsing í snjó (5)

5

Ræsing í snjó (5)

5

Hemlun í snjó (10)

10

Hemlun í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

8

Akstur í snjó (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

10

Akstur í bleytu (5)

3

Akstur í bleytu (5)

5

Flot (5)

4

Flot (5)

5

Hemlun á þurru (5)

4

Hemlun á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

5

Akstur á þurru (5)

5

Eyðsla (5)

4

Eyðsla (5)

4

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

4

Samtals (100)

81

Samtals (100)

75

FÍB-blaðið

15


Negld vetrardekk 5

6

NORDMAN NORTH 9 SUV

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

NANKANG SW-9 ICEACTIVA GRIP2 SUV

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

103 T 61 10,0 46/25 Finnland

69

STIG

103 T 55 8,8 12/25 Kína

67

STIG

Almennt minna grip.

Fyrir þá sem aka nær eingöngu á snjó.

Nordman North 9 byggir að hluta á Nokian Hakkapeliitta 9. Mynstrið er það sama en Nordman er með harðari gúmmíblöndu.

Nankang kemur skemmtilega á óvart í vetrarprófuninni og er langbesta ódýra dekkið sem við höfum ekið á snjó og ís.

Þó að Nordman hafi yfirleitt sterka vetraráherslu veldur harðara gúmmíið vonbrigðum á ís. Frammistaðan er einungis miðlungs góð. Dekkið svarar stýri hratt og er líflegt í beygjum, en gripið bliknar í samanburði við bestu keppinautana.

Gripið jafnast ekki á við dýrari dekkin, en Nankang hegðar sér fyrirsjáanlega og varar snemma við áður en gripið tapast, og þá gerist það átakalaust. Aftur á móti koma veikleikar í ljós á auðum vegi. Grip í bleytu er lélegt, dekkið flýtur snemma og stýringin er fljótandi á malbiki. Í svigakstri skrikar bíllinn mikið og nákvæmni vantar.

Við vetraraðstæður er dekkið öruggt án þess að heilla. Slakt gripið kemur einnig fram á blautu malbiki og veggnýr á malbiki er meiri en æskilegt væri. Í heildina lendir dekkið í fimmta sæti. Kostir: Góð svörun í stýri á snjó og ís.

Fyrir þá sem aka mest á snjó virkar dekkið vel, en eins og svo oft í lággjaldaflokknum vantar trausta heildarmynd. Þrátt fyrir lítinn veggný endar dekkið í sjötta sæti.

Ókostir: Almennt minna grip, stöðugleiki á þurrum vegi, veggnýr.

Kostir: Gott vetrargrip miðað við verð. Ókostir: Vafasamir eiginleikar á malbiki, flýtur snemma.

Ræsing á ís (5)

4

Ræsing á ís (5)

3

Hemlun á ís (15)

9

Hemlun á ís (15)

9

Akstur á ís (15)

9

Akstur á ís (15)

12

Ræsing í snjó (5)

5

Ræsing í snjó (5)

5

Hemlun í snjó (10)

10

Hemlun í snjó (10)

10

Akstur í snjó (10)

6

Akstur í snjó (10)

8

Hemlun í bleytu (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

4

Akstur í bleytu (5)

3

Akstur í bleytu (5)

3

Flot (5)

4

Flot (5)

1

Hemlun á þurru (5)

3

Hemlun á þurru (5)

3

Akstur á þurru (5)

3

Akstur á þurru (5)

1

Eyðsla (5)

5

Eyðsla (5)

4

Veggnýr (5)

2

Veggnýr (5)

4

Samtals (100)

69

Samtals (100)

67

16

FÍB-blaðið


Negld vetrardekk 7

X BRIDGESTONE BLIZZAK SPIKE 3

KUMHO WINTERCRAFT ICE WI32

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

Hraða/burðarþol: Hörkuþol (Shore): Mynsturdýpt: Framleitt (vika/ár): Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

103 T 62 8,6 15/24 Suður-Kórea

49

STIG

103 T 63 9,2 16/25 Ungverjaland

78

STIG

Óumflýjanlegt neðsta sæti.

Dæmt úr leik: of langir naglar.

Nagladekk Kumho voru uppfærð fyrir nokkrum árum, en það á augljóslega aðeins við um takmarkaðan fjölda stærða. Í þessum prófunum veldur dekkið vonbrigðum.

Í ár er Bridgestone búið óvenju löngum nöglum, nokkuð sem við höfum áður gagnrýnt ódýrari dekk fyrir.

Naglarnir standa tiltölulega lítið út þótt dekkið falli ekki undir nýju naglareglurnar. Harðasta gúmmíblandan í prófuninni hjálpar heldur ekki upp á gripið á ís. Einnig á snjó er Kumho á eftir keppinautunum. Og þegar gripið sleppir skrikar dekkið skyndilega og bíllinn lætur illa að stjórn. Á þurru malbiki eru eiginleikarnir mun betri, með stuttri hemlunarvegalengd, góðum stöðugleika í svigakstri og lágu viðnámi. Grip í bleytu er þó lélegt, bæði í beygjum og við hemlun, og veggnýr mikill. Neðsta sætið er óumflýjanlegt.

Naglarnir samræmast ekki gildandi reglum og veita ósanngjarnt forskot á ísilögðum vegum. Þess vegna er Bridgestone dæmt úr leik í heildarniðurstöðum könnunarinnar. Ef litið er fram hjá naglamálinu er dekkið einnig með eina hörðustu gúmmíblönduna í prófuninni og ósannfærandi frammistöðu. Þegar gripið minnkar getur það gerst fyrirvaralaust, sem gerir Bridgestone óútreiknanlegt í samanburði við bestu keppinautana. Á þurru malbiki er hemlunarvegalengdin sú lengsta. Fyrir utan forskotið í hálku skilar Bridgestone að mestu miðlungsniðurstöðum. Kostir: Fyrri prófanir hafa sýnt gott grip á ís.

Kostir: Góð aksturstilfinning og stöðugleiki á malbiki, lágt veltiviðnám.

Ókostir: Óeðlilega langir naglar, veggnýr, veltiviðnám.

Ókostir: Lélegt grip bæði á ís og blautu malbiki, mikill veggnýr. Ræsing á ís (5)

1

Ræsing á ís (5)

5

Hemlun á ís (15)

3

Hemlun á ís (15)

15

Akstur á ís (15)

3

Akstur á ís (15)

15

Ræsing í snjó (5)

5

Ræsing í snjó (5)

5

Hemlun í snjó (10)

10

Hemlun í snjó (10)

8

Akstur í snjó (10)

4

Akstur í snjó (10)

6

Hemlun í bleytu (10)

4

Hemlun í bleytu (10)

8

Akstur í bleytu (5)

2

Akstur í bleytu (5)

3

Flot (5)

2

Flot (5)

3

Hemlun á þurru (5)

4

Hemlun á þurru (5)

3

Akstur á þurru (5)

4

Akstur á þurru (5)

3

Eyðsla (5)

5

Eyðsla (5)

3

Veggnýr (5)

2

Veggnýr (5)

1

Samtals (100)

49

Samtals (100)

78

FÍB-blaðið

17


RÆSING Á ÍS (SEK)

HEMLUN Á ÍS (MÍN)

AKSTUR Á ÍS (SEK)

Innandyra, -4 til -6°C. Hröðun 5–25 km/klst, meðaltal þriggja lota.

Innandyra, -4 til -6°C. ABS-hemlun 25–5 km/klst, meðaltal tólf hemlana.

Skýjað, -10 til -12°C. Meðaltal sex hringja, aksturstilfinning metin með.

Bridgestone

8,5

Bridgestone

8,28

Bridgestone

77,8

Nokian

10,4

Nokian

10,81

Nokian

78,0

Michelin

10,6

Michelin

11,39

Goodyear

78,5

Pirelli

12,5

Goodyear

12,42

Michelin

79,1

Nordman

12,5

Nordman

13,78

Nankang

80,4

Goodyear

12,9

Nankang

14,22

Nordman

82,9

Nankang

13,6

Pirelli

15,19

Pirelli

84,2

Kumho

17,3

Kumho

17,64

Kumho

86,4

Með óvenjulöngum nöglum er Bridgestone í sérflokki. Þar á eftir gefa Nokian og Michelin besta gripið, en Kumho á enn erfiðara með að komast af stað og er sjö sekúndum lengur í 25 km/klst.

Fyrir utan Bridgestone stöðvar Nokian best, síðan Michelin og Goodyear. Nordman þarf þremur metrum lengri vegalengd en dýrari frændinn Nokian úr 25 km/klst og Kumho fjórum metrum meira.

Af hefðbundnu nagladekkjunum (þ.e. öðrum en Bridgestone) hefur Nokian besta gripið í beygjum og er auðveldast í stjórn. Nankang kemur á óvart og er stöðugt á jaðri veggrips. Kumho er erfiðast í stjórn.

RÆSING Í SNJÓ (SEK)

HEMLUN Í SNJÓ (MÍN)

AKSTUR Í SNJÓ (SEK)

Skýjað, -5 til -15°C. Hröðun 5–35 km/klst, meðaltal fimm lota.

Skýjað, -5 til -15°C. ABS-hemlun 35–5 km/ klst, meðaltal fimm lota.

Skýjað, -11 til -14°C. Meðalhringtími þriggja hringja, aksturstilfinning metin með.

Michelin

4,9

Nankang

13,9

Nokian

69,1

Pirelli

4,9

Michelin

13,9

Michelin

69,5

Kumho

5,0

Nordman

14,1

Goodyear

69,7

Goodyear

5,0

Nokian

14,1

Nankang

70,8

Nordman

5,0

Pirelli

14,3

Pirelli

70,9

Nokian

5,1

Goodyear

14,3

Nordman

71,0

Bridgestone

5,1

Kumho

14,3

Bridgestone

71,2

Nankang

5,1

Bridgestone

14,6

Kumho

72,6

Á snjó skipta naglarnir mun minna máli. Hér snýst allt um að mynstrið fyllist af snjó sem grípur í snjóinn á veginum, og öll dekkin standa sig svipað.

Enginn marktækur munur mælist við hemlun á snjó, þrátt fyrir endurteknar mælingar. Innan við þrjú prósent skilja að fyrstu sjö dekkin. Bridgestone er fimm prósentum á eftir Nankang og Michelin.

Nokian er best í beygjum og Nankang kemur á óvart sem eitt það auðveldasta í stjórn á jaðri veggrips, óvenjulegt fyrir lággjaldadekk. Bridgestone og Kumho geta sleppt gripinu skyndilega.


FLOT (KM/KLST)

HEMLUN Á BLAUTU MALBIKI (MÍN)

AKSTUR Á BLAUTU MALBIKI (SEK)

Skýjað, +2 til +5°C. Hraði þegar drifhjólin spóla í 6 mm vatni.

Skýjað, +3 til +8°C. Hemlun 100–5 km/klst á malbiki með 1 mm vatni.

Skýjað, +4 til +6°C. aksturstilfinningu.

Byggir

aðallega

á

Pirelli

73,5

Pirelli

54,1

Pirelli

40,2

Nokian

69,0

Goodyear

55,2

Nokian

40,5

Nordman

68,7

Nokian

56,1

Goodyear

40,6

Goodyear

68,4

Bridgestone

58,4

Bridgestone

41,3

Michelin

67,9

Nordman

59,9

Nankang

41,5

Bridgestone

65,3

Michelin

61,0

Michelin

41,6

Kumho

63,0

Kumho

61,8

Nordman

41,7

Nankang

59,8

Nankang

63,5

Kumho

42,0

Pirelli ræður best við djúpt vatn. Nokian er sex prósentum lakara en Nankang hefur lélega vörn gegn floti, heilum 20 prósentum á eftir Pirelli.

Þegar Pirelli hefur stöðvast er Nankang enn á 41 km/klst hraða. Auk Pirelli hemla Goodyear og Nokian vel í bleytu, aðeins einum og tveimur metrum á eftir úr 100 km/klst.

Pirelli fer best í krappar beygjur á blautu malbiki. Nokian undirstýrir meira en Goodyear er í góðu jafnvægi. Bridgestone getur skrikað á of miklum hraða og Kumho hefur almennt lítið grip í beygjum.

HEMLUN Á ÞURRU MALBIKI (MÍN)

AKSTUR Á ÞURRU MALBIKI

EYÐSLA (L/100 KM)

Breytilegt veður, +4 til +6°C. Hemlun 100–5 km/klst, meðaltal sex hemlana.

Breytilegt veður, +3 til +6°C. Huglægt mat (1–5) á stýri, stöðugleika og svigakstri.

Skýjað, +11 til +12°C. Jafn 70 km/klst hraði, alls 20 km á hringbraut.

Goodyear

51,2

Pirelli

5

Kumho

6,17

Pirelli

51,3

Michelin

5

Nordman

6,24

Michelin

52,3

Goodyear

4

Pirelli

6,30

Kumho

52,5

Kumho

4

Michelin

6,43

Nokian

52,5

Bridgestone

3

Goodyear

6,45

Nordman

53,6

Nordman

3

Nankang

6,45

Nankang

54,0

Nokian

2

Nokian

6,52

Bridgestone

55,4

Nankang

1

Bridgestone

6,58

Á þurru malbiki stöðva Goodyear og Pirelli best. Kumho líður mun betur á þurru en blautu og hemlar vel. Bridgestone á erfiðast með að stöðva, um bíllengd á eftir þeim bestu.

Ekkert dekk nýtur sín jafn vel í beygjum og Pirelli. Michelin heillar með góðri stýristilfinningu og rásfestu. Nokian er með óljósa stýringu og Nankang skrikar mikið í svigakstri.

Kumho rúllar léttast og gefur minnsta eyðslu. Þrátt fyrir nýju naglatæknina er eyðslan örlítið meiri hjá Nokian, og Bridgestone þarf um sex prósent meiri orku.

HEILDARSTIG (AF 100)

VETRARSTIG (AF 60)

VEGGNÝR

Samanlögð stig allra liða. Bridgestone dæmt úr leik.

Samanlögð stig á ís (35) og snjó (25).

Mælt við höfuð ökumanns á 70 og 110 km/klst. Huglægt mat (H) vegur þyngst.

Nokian

92

Nokian

60

Goodyear

89

Goodyear

54

Nokian

5

65,6

69,5

Michelin

81

Michelin

52

Goodyear

4

66,3

70,8

Pirelli

75

Nankang

47

Pirelli

4

67,1

70,9

Nordman

69

Nordman

43

Nankang

4

66,2

71,0

Nankang

67

Pirelli

37

Michelin

3

67,2

70,9

Kumho

49

Kumho

26

Nordman

2

66,7

71,1

Bridgestone

(78)

Bridgestone

(54)

Kumho

2

67,2

71,7

Bridgestone

1

68,1

72,4

Nokian sigrar með 92 stig, þremur stigum á undan Goodyear. Bridgestone hefði fengið 78 stig en var dæmt úr leik vegna of langra nagla.

Nokian fær fullt hús á ís og snjó. Pirelli tapar miklu á ís og Kumho er langt á eftir öllum hinum.

Huglægt (H)

dB 70

dB 110

Hér sýnir nýja naglatækni Nokian sínar bestu hliðar. Andstæðan er Nordman, Kumho og þó sérstaklega Bridgestone, þar sem langir naglarnir valda miklum hávaða.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Vetrardekkjakönnun 2026 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu