Skip to main content

Vetrardekkjakönnun FÍB 2019

Page 1


VETRAR DEKKJA könnun fíb 2019

nagladekk

Continental IceContact 3 FlexStud

Fjöldi nagla: 192

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 2, 2019

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk: kr.

88 STIG

IceContact kemur með stærstu breytingarnar á vetrardekkjamarkaðinn á þessu ári. Dekkið fékk hæstu einkunn í prófunum og fór því í fyrsta sæti.

Gúmmíblandan í dekkinu er mjúk eins og um óneglt dekk væri að ræða. Það er jafnvel mýkra en ónegldu Nokian–dekkin.

Í grunninn eru þetta nagladekk sem hegða sér eins og um naglalaus dekk séu að ræða og skilar það dekkjunum bestu einkunn bæði í snjó og hálku. Með nýjum gúmmí nöglum með stálpinna frá Continental hefur tekist að draga umtalsvert úr veggný. Hins vegar er dekkið ekki eins gott við akstur á auðu malbiki. Bremsuvegalengd er stutt en mýktin á dekkinu getur valdið erfiðleikum við stýringu. Þá virðist dekkið einnig slitna hratt við akstur á malbiki.

Þegar öllu er á botninn hvolft hefur IceContact3 þó vinninginn og setur um leið ný viðmið þegar kemur að vetrardekkjum.

Kostir: Gott grip í snjó og ís, hljóðlátt.

Gallar: Mjúkt og fljótandi á auðu malbiki.

3

Ónegld dekk til viðmiðunar

Fjöldi nagla: 0

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 47, 2018

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Til að bera saman ónegld dekk við negld var notast við ContinentalContact7 frá Continental sem sigraði í fyrra í flokki ónegldra dekkja.

Þrátt fyrir að vera naglalaust vetrardekk koma veikleikarnir helst fram við akstur á malbiki. Mjúkt munstur sem eykur á grip og stöðugleika veldur því einnig að vatn á ekki auðvelt með að komast undan dekkinu sem síðan veldur floti.

Aftur á móti nær dekkið stigum sínum til baka þegar kemur að akstri í vetrarfærð.

Hæfileikar dekksins koma best fram við akstur í snjó en einnig vinnur það vel í hálku þrátt fyrir að vera naglalaust.

Við akstur á grófum ís kemur bersýnilega í ljós hversu megnug ný naglalaus vetrardekk eru orðin.

Hljóðlát dekk með gott grip við vetraraðstæður landa þriðja sætinu skammarlaust.

Kostir: Grip í snjó, grip í beygjum á grófum ís, hljóðlátt.

2

Michelin X-ICE North 4

Fjöldi nagla: 257

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 4, 2018

Framleiðsluland: Rússland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk: kr.

257 naglar í hverju dekki gerir XIN4 einstakt í flokki nagladekkja.

Dekkið hefur hneigingu til að valda undirstýringu en nær að rétta sig af án vandræða. Þrátt fyrir þetta stendur XIN4 sig einna best allra dekkja í snjó og hálku.

Þá hefur Michelin tekist að búa til dekk sem er jafnvígt í snjó og á þurru malbiki. Dekkið er með bestu niðurstöðu þegar litið er yfir alla þætti miðað við aðstæður og undirlag.

Vel að öðru sæti komið.

Kostir: Grip við vetraraðstæður, stöðugt á malbiki, hljóðlátt.

Ókostir: Flot.

4

Nokian Hakkapeliitta 9

Fjöldi nagla: 196

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98T

Framleiðsludags: Vika 45, 2018

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Nokian–dekkið býður upp á góða aksturseiginleika við allar aðstæður.

Gott grip í snjó og ísakstri skipar Hakkapeliitta 9 í röð með bestu dekkjum ásamt því að vera best í sínum flokki þegar kemur að svigakstri við blautar aðstæður.

Á þurru malbiki koma veikleikar dekksins í ljós þar sem bremsuvegalengd er miðlungs góð og ónákvæmt í stýri. Að auki á dekkið erfitt með að ýta vatni frá sér sem veldur floti og þá þykir það heldur hávært.

Á heildina litið er Hakkapeliitta 9 skemmtilegt og öruggt aksturdekk, sérstaklega við akstur í ís og snjó.

Hakkapeliitta 9 situr því í þriðja sæti yfir bestu nagladekkin og því fjórða séu ónegld dekk tekin með.

Kostir: Akstursánægja, öryggistilfinning, grip í vetraraðstæðum.

Gallar: Veggnýr, flot.

Gallar: Grip í bleytu, akstur á þurru malbiki, flot.

Hankook Winter i*Pike RS2

Fjöldi nagla: 198

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 30, 2018

Framleiðsluland: Suður-Kórea

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

69 STIG

Önnu kynslóð i*Pike hefur fengið uppfærslu..

Winter i*Pike RS2 var með eina lengstu bremsuvegalengd á þurru og blautu malbiki.

Á móti stóð dekkið sig best af öllum þegar flot var prófað.

i*Pike fékk enn slakari einkunn en búist var við í akstri á ís en dekkið hefur stystu naglana af öllum prufudekkjunum.

Hankook er nánast á pari við Nokian–dekkið þegar kemur að aksturánægju. Dekkið getur tekist á við fjölbreyttar aðstæður en örlar á yfirstýringu undir miklu álagi.

Kostir: Akstursánægja, flot, fjölbreytileiki.

Gallar: Veggnýr, hemlun á blautu malbiki

7

Bridgestone Noranza 001

Fjöldi nagla: 198

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 16, 2018

Framleiðsluland: Rússland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Noranza 001 hefur verið að vinna á frá 2016 en með aukinni samkeppni frá öðrum framleiðendum færist dekkið aftar í röðina.

Dekkið hefur gott grip á ís en skilar verstu niðurstöðu þegar kemur að gripi í snjó.

Þegar mest á reyndi í akstri og dekkið var við það að missa grip skiptist það þá á að fara í undir- og yfirstýringu.

Á malbiki sýndi dekkið gott viðbragð og stöðugleika, örlaði á yfirstýringu.

Niðurstöður prófana skilar Bridgestone aðeins sjöunda sæti þetta árið.

Kostir: Viðnám við yfirborð og eyðsla elsneytis, eiginleikar við þurrar aðstæður.

Gallar: Hemlun í þurru, flot.

Goodyear UltraGrip IceArtic SoundComfort

Fjöldi nagla: 130

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 28, 2018

Framleiðsluland: Pólland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Fáir naglar valda slöku gengi. Í fyrri prófunum hefur veggnýr verið í hærra lagi en það hefur batnað eftir að dekkin hafa fengið hljóðdempandi mottur að innan. Með aðeins 130 nagla til umráða á Goodyear í erfiðleikum með grip á ís og í snjó.

Bestu eiginleikar koma í ljós við hröðun og hemlun á beinum vegi en gripið versnar í kröppum beygjum og umtalsverðar líkur á undirstýringu. IceArtic stendur sig betur á malbiki. Þar sýnir það stöðugleika og stutta bremsuvegalengd jafnt í blautu sem þurru. Að auki ryður það vatni vel frá sér sem dregur úr hættunni á floti.

Þegar allt er tekið saman hreppir Goodyear sjötta sæti.

Kostir: Akstur í þurru, hemlun í snjó.

Gallar: Grip við svigakstur á ís og snjó, viðnám.

Fjöldi nagla: 139

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 31, 2017

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Sjaldan hefur dekk fengið jafn slæma einkunn eins og þetta ódýra dekk frá Kína.

Kínverska merkið Sailun olli strax vonbrigðum áður en prófun hófst. Eftir rólegan 50 kílómetra akstur höfðu naglar færst til og jafnvel dottið úr dekkinu.

Gúmmíblandan í dekkinu er hörð eins og sumardekk og skortir alla festu við akstur í snjó og þá er ekki bara verið að miða við nagladekk. Það væri ekki einu sinni hægt að kalla dekkið heilsársdekk. Í grunninn er í raun blekking að tala um þetta sem vetrardekk.

Þrátt fyrir harða gúmmíblöndu er dekkið ekkert betra á þurru malbiki. Þegar ekið er nálægt gripmörkum verður dekkið óútreiknanlegt og erfitt viðureignar.

Dekkið fer án efa í síðasta sæti.

Kostir: Engir.

Gallar: Slakt grip við vetraraðstæður, aksturseiginleikar í þurru.

Sailun IceBlazer WST3
32 STIG

Continental VikingContact 7 1

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 47, 2018

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk: kr.

89 STIG

VC7 kom á markað á seinasta ári og hefur staðið uppi sem sigurvegari í ýmsum prófum. Niðurstöður úr þessum prófunum sýna fram á að það stendur vel undir nafni.

Continental var með mýkstu gúmmíblönduna af öllum dekkjunum sem voru prófuð að þessu sinni. Þrátt fyrir að hafa ekki nagla stóð dekkið sig sérstaklega vel þegar kom að gripi á ís og í snjó. Dekkið er auðvelt í keyrslu jafnvel þegar farið er í skarpar beygjur og losar síðan grip með léttri undirstýringu.

VC7 hefur tekist að tvinna saman mýkt, gúmmí blöndu fyrir vetraraðstæður án þess að fórna viðbragði og stöðugleika í stýringu á þurru malbiki. Stærsti veikleikinn kemur í ljós við akstur á blautum vegi þar sem það fer að fljóta fyrst af öllum dekkjum.

Án efa vinningsdekkið – aftur.

Kostir: Grip á ís og í snjó, hljóðlát.

Gallar: Flot.

3

Goodyear Ultra Grip Ice2 Sound Comfort

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 12, 2018

Framleiðsluland: Pólland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Goodyear er einn af fáum framleiðendum til að bjóða upp á hljóðdempandi tækni í vetrardekkjum, svokallað „SoundComfort“. Á sú tækni frekar við um lág sumardekk.

Hingað til hefur Ice2 verið fremur hávært dekk en með SoundComfort tekst því að vera hljóðlátasta dekkið í prófunum.

Ice2 er eitt af fáum naglalausum dekkjum sem nýtur sín vel á blautu malbiki. Það nær öruggu forskoti við akstur í braut og hefur bestu einkunn við mælingar á floti. Að auki er það stöðugasta dekkið á þurru malbiki.

Fremur hörð gúmmíblanda, stendur sig ágætlega við vetraraðstæður en skortir grip í beygjum þar sem Nokian og Continental njóta sín betur.

Öruggt þriðja sæti.

Kostir: Flot, eiginleikar á malbiki, hljóðlátt.

2

Nokian Hakkapeliitta R3

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 30, 2018

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk: kr.

Hakkapeliitta R3 hefur gott grip í vetraraðstæðum og skorar einna hæst allra ónegldra dekkja þegar kemur að skörpum beygjum.

Dekkið svarar vel upp í stýri, er auðvelt í akstri og veitir góða öryggistilfinningu við akstur á ís og í snjó. Nokian fylgir Continental fast eftir með bestu niðurstöður við akstur í vetraraðstæðum.

Á þurru malbiki veitir dekkið ekki alveg nógu góð viðbrögð upp í stýri en skilar hlutverki sínu annars ágætilega án óvæntrar uppákomu. Nokian fellur undir meðaltali í einkunn þegar kemur að mælingu á floti en við hemlun á blautu malbiki tekur Nokain fyrsta sætið í ónegldum dekkjum. Það er hannað til aksturs í vetraraðstæðum og skilar það dekkinu í annað sæti.

Kostir: Grip við vetraraðstæður, akstursánægja.

Gallar: Flot, stýring á þurrum vegi.

4

Nordman RS2

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98R

Framleiðsludags: Vika 44, 2018

Framleiðsluland: Rússland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Nordman RS2 er í raun eldri útgáfa af Nokian Hakkapeliitta

R sem fékk nýtt líf undir nýju nafni.

Þrátt fyrir að hafa verið í framleiðslu í nokkur ár er dekkið vel samkeppnishæft við nýju dekkin þegar kemur að vetrarakstri.

Í samanburði við Nokian skortir Nordman skörpu viðbragðseiginleika Nokain. Nordman missir grip fyrr og er ekki jafn auðstjórnað. Á malbiki og þá sérstaklega á blautu tapar Nordman mörgum stigum. Dekkið hefur lengstu bremsuvegalengdina og eins og mörg önnur ónegld dekk á það erfitt með að ryðja frá sér vatni og fer að fljóta.

Á þurru malbiki eru niðurstöðurnar ásættanlegar.

Gott vetrardekk sem lendir í fjórða sæti.

Kostir: Grip í vetraraðstæðum, örugg aksturupplifun við akstur í ís og á snjó.

Gallar: Flot, grip á blautu og þurru malbiki.

Gallar: Miðlungsgrip þegar beygt er á ís.

5

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98T

Framleiðsludags: Vika 23, 2017

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

66 STIG

Vegna skorts á gripi nær þetta undirmerki Goodyear ekki að hærra sæti í þessum prófunum.

Sava er í eigu Goodyear og eins og stóri bróðir eru styrkleikarnir mestir við akstur á blautu malbiki og ryður vel frá sér vatni. Það er eingöngu Goodyear sem nær betri niðurstöðum af öllum ónegldu dekkjunum.

Eins og samanburðardekkið er Sava hljóðlátt, létt og stöðugt við akstur á þurru malbiki. Upptak og hemlun fá ásættanlega niðurstöðu.

Grip í beygjum vefst fyrir dekkinu. Það er þungt í akstri og lætur illa að stjórn og þegar komið er inn í beygju breytist hegðunin skyndilega í yfirstýringu (bíllinn beygir meira en stýrið gefur til kynna)

Þessar niðurstöður skila dekkinu fimmta sæti.

Kostir: Flot, akstureiginleikar á malbiki.

Gallar: Grip í beygjum á ís og í snjó.

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98

Framleiðsludags: Vika 16, 2018

Framleiðsluland: Rússland

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Til samanburðar er notast við ContiWinterContact TS860 vetrardekk sem hefur fengið góða dóma fyrir vetrarakstur.

Dekkið er hannað sérstaklega fyrir akstur í bleytu við frostmark.

Dekkið var með yfirburði þegar kom að akstri á auðum vegi og þá sérstaklega blautu malbiki þar sem veikleiki norrænu nagladekkjanna lá. Þegar kom að akstri í snjó og þá sérstaklega ís stóð dekkið sig ekki jafn vel.

Dekkið lætur ökumann vita í tíma þegar komið er að þolmörkum á gripi sem gerir það auðakanlegt þrátt fyrir slakt grip. Þetta eru fyrirsjáanleg og þægileg akstursdekk þrátt fyrir slakt grip. Ágætur kostur ef meiri hluti af akstri fer fram á auðum og greiðfærum vegum.

Hins vegar veldur slök niðurstaða úr vetrarprófunum því að dekkið hafnar í sjöunda sæti.

Kostir: Rásfast við akstur á þurrum og blautum vegi.

Gallar: Grip á ís, veggnýr, iðnám við yfirborð og eyðsla elsneytis

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 94Q

Framleiðsludags: Vika 31, 2017

Framleiðsluland: Japan

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

IG60 er nýung frá japanska framleiðendum Yokohama og tekur við af IG50. Niðurstöður prófana eru ásættanlegar en ekkert meira en það.

Dekkið leitar í undirstýringu og þarf að fara hægt í beygjur. Við aukinn hraða getur einnig orðið vart við skort á gripi á afturhjólum.

Dekkið er ágætt á malbiki og sýnir gott viðbragð upp í stýri en missir síðan marks þegar kemur að skörpum beygjum. Ástandið versnar á blautum vegi. Dekkið hefur langa bremsuvegalengd, fer hægast yfir í beygjum og vill fara að fljóta full snemma.

Með miðlungseinkunn og enga sérstaka eiginleika lendir dekkið í sjötta sæti.

Kostir: Hemlun í snjó.

Gallar: Grip á blautum vegi, flot.

Hraðaþol: T(190 km/h)

Burðarþol: 98T

Framleiðsludags: Vika 34, 2018

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili:

Verð per. dekk kr.

Lágt verð forðar Leao ekki frá því að lenda í neðsta sæti.

Kínverska merkið Leao, sem er í eigu Linglong, þykir aðlaðandi vegna lága verðs.

Í vetrarprófununum stóð Leao sig furðuvel í samanburði við stærri framleiðendur.

Þá ryður gróft munstrið vel frá sér vatni sem dregur úr hættu á floti.

Veikleikarnir koma þó fljótt í ljós undir álagi. Á ís og í snjó getur dekkiðskyndilega misst grip og á í erfiðleikum með að ná sér á strik aftur. Við akstur á þurru malbiki nær dekkið ekki að fylgja skörpum beygjum, jafnvel á lágum hraða. Sama á við um akstur í bleytu en það skrikar til í hverri beygju.

Dekkið á því skilið seinasta sæti.

Kostir: Ágætt grip í vetraraðstæðum.

Gallar: Aksturseiginleikar, missir grip óvænt.

Sava Eskimo Ice
Yokohama IceGuard IG60
Samanburðardekk
Leao Winter Defender Ice I-15
48 STIG

Í ÞURRU

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Vetrardekkjakönnun FÍB 2019 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu