Skip to main content

Iceland EuroRAP 2018

Page 1


Öruggari vegir stuðla að fækkun slysa og skila miklum ávinningi

Reynsla annarra þjóða sýnir að fyrir hverja krónu sem varið er til að bæta vegaöryggi hagnast þjóðfélagið að jafnaði um tvær til fjórar fækkun slysa. Til mikils er að vinna fyrir okkur Íslendinga. Um 75% af vegakerfinu er með eina eða tvær stjörnur í öryggisúttekt EuroRAP. Fyrir hverja eina stjörnu sem vegur uppfærist sýnir reynslan að slysum fækkar um helming.

Slysaskráningar Samgöngustofu bera vitni um þær þjáningar og hörmungar sem fylgja umferðarslysum. Hér til hliðar er slysakort Samgöngustofu fyrir síðustu 5 ár, 2013-2017. Á þessu tímabili létust 69 manns í umferðarslysum, 936 slösuðust alvarlega og 5.539 slösuðust lítillega.

Bakjarlar EuroRAP öryggisúttektar FÍB á vegakerfinu frá 2004

Þriðji áfangi öryggisúttektar EuroRAP öllum aðgengilegur á netinu

FÍB hefur undanfarin ár séð um framkvæmd EuroRAP öryggisúttektarinnar á vegakerfinu.

Búið er að meta 4.200 km af þjóðvegum í dreifbýli og þéttbýli og skrá í gagnagrunn EuroRAP. Þar fá veghlutar stjörnur eftir því hvernig öryggi þeirra er metið samkvæmt stöðlum EuroRAP.

Nú hefur EuroRAP gagnagrunnur íslenska vegakerfisins verið gerður aðgengilegur á netinu, en þar er að finna öryggismat veganna samkvæmt stjörnugjöf EuroRAP.

Markmiðið er að allir vegir verði minnst þriggja stjörnu

Því fleiri stjörnur sem vegarkaflar fá, þess meira telst öryggi þeirra. Samkvæmt öryggismati EuroRAP eru aðeins 25% íslenskra vega með þrjár stjörnur eða meira. Markmiðið er að allir vegir verði að lágmarki þriggja stjörnu.

Stjörnugjöf

nýtt til úrbóta

Öryggismati EuroRAP er ætlað að vera til ráðgjafar fyrir stjórnvöld, veghaldara, veghönnuða, verktaka, tryggingafélög og aðra sem láta sig umferðaröryggi varða. Stjörnugjöfin sýnir hvar aðgerða er þörf og hvað þarf að gera til að auka öryggið.

grunn EuroRAP á vef FÍB fib.is

Íslenskar aðstæður sem ráða stjörnugjöf veganna

Eitt af því sem helst dregur úr öryggi vega hér á landi eru brattir vegkantar, sem stórauka líkurnar á að bílar velti ef þeir fara útaf. Það á við um tæplega tvö þúsund kílómetra, eða 47% af mældum vegum. Hættulegar fyrirstöður nálægt vegköntum draga einnig úr öryggi. Á 53% veganna eru slíkar fyrirstöður á borð við skilti, staura og grjót innan eins metra frá vegkanti. Skortur á góðum eða réttum yfirborðsmerkingum hefur áhrif á stjörnugjöfina, svo og breidd vega, slit á yfirborði, breidd á vegöxlum, aðgreining á akstursstefnum, gerð gatnamóta, krappar beygjurog lýsing. Leyfður hámarkshraði hefur mikil áhrif á stjörnugjöfina, því eftir því sem hann er hærri þess meiri öryggiskröfur eru gerðar til að vegurinn geti talist öruggur fyrir vegfarendur.

Öryggisúttekt íslenska vegakerfisins

Öryggisúttekt veganna fer fram með sérútbúnum skoðunarbíl og eru 50 atriði í umhverfi veganna skráð niður með rafrænum hætti og niðurstöðunum hlaðið inn í gagnagrunn EuroRAP. Tæknin við úttektina hefur tekið framförum í gegnum tíðina líkt og öll önnur tækni. Lengi vel voru öryggisatriðin skráð í tölvu jafnóðum og ekið var um vegina og einnig af vídeóupptökum. Nú er búið að taka búnað í notkun sem skráir öll atriði í umhverfi veganna sjálfvirkt og er þeim síðan hlaðið inn í gagnagrunninn að akstri loknum. Þessar tækniframfarir gera það að verkum að úttektin tekur mun skemmri tíma en áður. Ennfremur er víða byrjað að hlaða upplýsingum frá veghöldurum um vegaframkvæmdir beint inn í gagnagrunninn. Þannig er t.d. ávallt hægt að vera með nýjustu upplýsingar frá Vegagerðinni um vegamerkingar inni í gagnagrunninum, svo og aðrar endurbætur eða breytingar á vegakerfinu.

Sótt er um aðgang til að skoða gagna-

ÍSLAND EuroRAP öryggismat íslenska vegakerfisins – mars 2018

Stjörnugjöf vegakerfisins miðað við farþega ökutækja. Útgáfa 3.02

Mælingar 2012-2017

Stjörnugjöf er einföld og hlutlaus aðferð til að mæla það öryggi sem er „byggt inn“ í veginn miðað við allar aðstæður. Fimm stjörnu vegir eru öruggastir en einnar stjörnu vegir á hinum endanum. Öryggismat veganna er byggt á mælingum og greiningum.

Nánari upplýsingar er að finna á: http:// www.eurorap.org/protocols/star-ratings/

öryggismat vegarins.

Mælikvarði

Stjörnugjöf íslenskra þjóðvega - mars 2018

5

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Iceland EuroRAP 2018 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu