SUMARDEKKJA SUMAR DEKKJA
könnun fíb 2022
27
Fólksbíladekk
Sumardekkjap Motor, félagsblað hins norska systurfélags FÍB, NAF, vann og hafði umsjón með sumardekkjakönnuninni 2022. Eins og undanfarin ár fór sumardekkjaprófunin fram um miðjan október 2021 á Miravel Proving Grounds í Suður-Frakklandi. Þetta prófunarsvæði er í fremstu röð sinnar tegundar hvað gæði snertir og er staðsett rétt fyrir utan borgina Montpellier. Þá viku sem könnunin náði yfir var að mestu sólríkt, hitinn jafnan yfir 20 gráðum á daginn. Öll önnur skilyrði voru hin ákjósanlegustu með fjölda endurtekinna prófana. Þekktir dekkjaframleiðendur raða sér í efstu sætin hvað gæði snertir. Það á ekki að koma á óvart því að sams konar niðurstöður fengust úr könnunum þar á undan. Þó koma
reglulega inn markaðinn ný dekk sem geta allt eins verið álitslegur kostur en þarf þó ekki að vera í öllum tilfellum. Michelin og Goodyear hafa oft verið ofar í könnunum áður en vegnar ekki eins vel að þessu sinni. Continental Premium Contact 6 er sigurvegarinn í sumardekkjakönnuninni í ár og hlaut alls 89 stig. Í umsögn um dekkið kemur fram að það hafi stutta hemlunarvegalengd, mikið grip í beygjum og örugga aksturseiginleika. Nokia Hakka Blue 3 er í öðru sæti með 83 stig. Í umsögn segir að dekkið hafi gott grip á blautum vegum og sé hljóðlátt á grófu malbiki. Bridgestone Turanza T005 hafnaði í þriðja sæti með 81 stig og segir m.a. í umsögn að
28Ljósmyndir: FREDRIK DIITS VIKSTRÖM
dekkið bregðist vel við ýmsum akstursskilyrðum og veiti gott öryggi. Í næstum sætum þar á eftir koma Toyo Proxes Comfort, Michelin Primacy 4 og Goodyear Efficientgrip. Tyrkneska dekkið Petlas Imperium PT515 skoraði lægst í könnuninni, alls 41 stig. Hemlunargeta dekksins er afar slök og það bregst illa við í krefjandi aðstæðum. Öll próf hefjast og lýkur með dómum á svokölluðum viðmiðunarhjólbörðum til að ganga úr skugga um hvort einhverjar ytri aðstæður hafi áhrif á grip dekksins. Viðmiðunardekkið er einnig notað með öðrum prófunardekkjum þegar þörf er á, til dæmis ef veður- og hitabreytingar verða. Öll dekk eru síðan borin saman við viðmiðunardekkið. Þannig er hægt
prófun 2022 að leiðrétta niðurstöðuna út frá því hvernig yfirborð vegarins verður fyrir áhrifum ytri aðstæðna. Áður en prófin hefjast eru dekkin lítillega slitin eftir hefðbundinni aðferð þannig að þau koma ekki alveg ný frá verksmiðjuframleiðanda í prófin. Golf IV 1.4 TSI bílar með beinskiptingu voru m.a. notaðir í prófunum. Prófað var með ABSbremsum en hálkuvörnin var ekki virkjuð en þannig finna þeir sem koma að prófunum betur fyrir jafnvægi dekksins. Könnunin leggur áherslu á að það getur borgað sig að bera saman verð frá mismunandi birgjum. Dekk geta verið ódýrari ef þú kaupir á netinu en þó ekki alltaf. Hafa verður í huga að flutningur- og annar kostnaður á eftir að bætast ofan á. Bifreiðaeigendur vilja af öllum mætti forðast methátt eldsneytisverð eða endalausa hleðslustöðvun. Dekk með lágt veltiviðnám verða álitlegri en nokkru sinni fyrr og þá sérstaklega fyrir rafbílaeigendur. Í könnuninni kemur í ljós að aukin þróunarvinna hefur bætt hemlunarvegalengd sem er mikið öryggimál. Það vakti athygli hjá þeim sem komu að könnuninni hversu slök dekk frá virtum dekkjaframleiðendum eru sem sérstaklega eru hönnuð með rafbíla í huga. Það undirstrikar hversu mikla vinnu þarf, þolinmæði og gott jafnvægi í dekkjaframleiðslu til hanna gott dekk sem mætir öllum jafnt kröfum um vistvæn dekk án þess að gefa afslátt af öryggiskröfum. Grip þessara dekkja voru engan veginn nægilega góð og komu ekki vel út í prófununum og þá sérstaklega á blautu yfirborði.
Sífellt harðari umhverfiskröfur eru gerðar frá höfuðstöðvum ESB í Brussel til dekkjaframleiðanda og snúa þær sérstaklega að minna viðnámi og hljóðmengun. Raunin er sú að með auknum kröfum um vistvænni dekk hafa framleiðendur verið að minnka viðnám með því að gera þau stífari. Með stífari dekkjum getur síðan orðið til lengri hemlunarvegalengd og skert grip í krefjandi aðstæðum. Að auki snúa kröfurnar um að hljóðvist verði betri og er því ýmsum aðferðum beitt eins og að breyta mynstri. Athyglisvert er að horfa til þess að burðarþol dekkjanna virðist ekki breytast mikið þótt þau séu markaðsett fyrir rafbíla sem eru að öllu jöfnu umtalsvert þyngri en hefðbundnir eldsneytisbílar. Til að finna eins sambærileg dekk og hægt er meðal vistvænna- og hefðbundinna dekkja var notuð stærðin 205/55 R16 sem er ein mest
selda stærðin í flestum löndum. Dekkjavídd í sumarprófinu passar við margar vinsælar bílategundir og eru notaðar undir vinsæla rafbíla á borð Nissan Leaf, VW e-Golf og Hyundai Ionic svo að einhverjir séu nefndir. Það er mikilvægt að gera sér ljóst að þegar bifreiðaeigendur standa frammi fyrir því hvaða hjólbarðar fara undir bílinn er alls ekki víst að það verði þeir sem komu best út úr könnunni. Í endanlegri ákvörðunartöku þarf að hafa í huga hvaða tegund hjólbarða hentar þörfum hvers og eins. Taka þarf enn fremur tillit til aðstæðna og efnahag hjá hverjum og einum. Það gæti reynst sparnaður að velja ódýrari dekk frekar en úrvalsdekk. Í könnuninni var ekki unnin verðkönnun því að eins og gefur að skilja eru verð oft mismunandi milli söluaðila.
29
NÝJAR MERKINGAR Á DEKKJUM
Hvað þýða táknin? Frá og með 1. maí 2021 munu öll ný dekk sem seld eru í Evrópu bera nýjar merkingar. Þar koma aukalega fram upplýsingar varðandi eyðslu, veggný og grip í bleytu. Einnig er kominn QR kóði sem neytandi getur skannað og sótt sér enn ítarlegri upplýsingar varðandi viðkomandi dekk.
Grip við blautar aðstæður. Hemlunarvegalengd mæld frá 80-0 km/h. Einkunn á bilinu A-E og skilja 3 metrar á milli A og B og síðan C o.s.frv. Þannig má áætla að dekk með A einkunn nái að hemla 12 metrum skemur en E flokkur.
Viðnám Hér er viðnám dekkja mælt og gefin einkunn frá A-E þar sem A er lægsta eyðsla. Að öllu jöfnu má miða við að 0,1 lítri á 100 km skilji á milli hvers stafs. Sé þetta heimfært á rafbíla mætti segja að um 15 km sé á milli hvers stafs.
Veggnýr Mæling á veggný sem dekkin gefa frá sér er settar fram með einkunn á bilinu A-C. Þá er einnig tekið fram nákvæm desibil (dB) mæling sem er mæld við akstur fyrir utan bílinn.
30
Vetrardekk Búið er að bæta merkingar varðandi getu dekks til að aka í vetraraðstæðum. Fjall með snjókorni gefur til kynna að dekkið sé hæft við vetraraðstæður í mildara loftslagi. Fjall með snjótopp þýðir að dekkið sé betur fallið til aksturs við erfiðari vetraraðstæður.
Mikilvæg atriði í prófuninni Hemlun Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna er þyngst vægi aksturs og hemlunar í bleytu. Einkunnir hvers hjólbarða eru reiknaðar út frá meðaltali allra mælda hemlunarvegalengda á þurru annars vegar og blautu malbiki hins vegar. Veggrip Veggrip hjólbarðanna er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri braut. Akstur og mælingar eru margar og endurteknar af mörgum ökumönnum. Brautin er fjölbreytt og krefst hröðunnar, hemlunar og stýringar um krappar beygjur. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautartímamælinga. Aksturstilfinning Ökumenn í könnuninni meta á eigin forsendum hvernig hver hjólbarðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og ýmsum mismunandi akstursaðstæðum, eins og hvað gerist þegar bílinn skrikar, hvernig gerist það og hversu erfitt eða létt er að ná aftur fullri stjórn á bílnum. Slíkar aðstæður geta komið fyrirvaralaust upp við akstur. Um er að ræða blindpróf, það er að segja að ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund eru undir bifreiðinni hverju sinni. Flotun Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Skráður er sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar dekkin byrja að fljóta á vatnsyfirborðinu og veggripið hefur algerlega tapast. Veggnýr Veggnýrinn er bæði mældur með mælitækjum og metinn af ökumönnum. Ekið er eftir vegi með grófu yfirborði. Núningsmótstaða Núningsmótstaða/viðnám hjólbarða er mæld í sérstökum tækjabúnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnstu mótsstöðu (rennur lengst). Niðurstöðurnar eru síðan heimfærðar á eyðslu bíls hvort sem um ræðir eldsneyti eða rafmagn. 31
Sumardekk 1
2
CONTINENTAL PREMIUM CONTACT 6
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:
V(240 km/h) 91 (615 kg) 7,4 mm Vika 25, 2021 Tékkland BJB 19.505 kr.
malbiki.
89
STIG
Dekkin eru með bestu niðurstöðu úr hemlunarprófunum ásamt því að hafa gott grip við svigakstur jafnt á þurru sem og blautu
Dekkin bregðast nákvæmt og hratt við breyttri stefnu. Auðvelt er að halda stjórn jafnvel þegar komið er að þolmörkum við krefjandi aðstæður. Sportlegir eiginleikar dekksins koma fram á kostnað þæginda. Ójöfnur í vegi verða áþreifanlegri ásamt auknum veggný í samanburði við önnur dekk í prófununum en þó ekki svo mikið að valda óþægindum við akstur. Þrátt fyrir nokkra ókosti þá skilar stutt hemlun og góðar niðurstöður í prófunum við svigakstur dekkinu fyrsta sæti að þessu sinni. Kostir: Hemlun, gott grip í beygju, öryggistilfinning
NOKIAN HAKKA BLUE 3
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:
V(240 km/h) 94 (670 kg) 7,9 mm Vika 24, 2021 Finnland Max1
83
STIG
Þriðja kynslóð Hakka Blue dekkjanna var ein stærstu tíðindin í þessum prófunum. Í samanburði við fyrri kynslóð hefur náðst aukið jafnvægi milli grips á blautu og þurru undirlagi með auknum stöðugleika, sérstaklega á þurru malbiki. Niðurstöður í hemlunarprófunum eru þær bestu í ár. Dekkið lætur auðveldlega að stjórn og heldur afturenda bílsins stöðugum, jafnvel í kröppum beygjum á miklum hraða. Hins vegar nær dekkið ekki bestu niðurstöðum þegar kemur að floti ásamt því að viðnám er heldur mikið. Veggnýr er í lágmarki á sléttu malbiki og stendur það sig mjög vel eftir því sem yfirborðið verður grófara. Gott grip í svigakstri á blautri braut og aukin stöðugleiki á þurru yfirborði landa dekkinu öðru sæti. Kostir: Grip á blautum vegi, auðkeyrt undir álagi á grófu yfirborði
Ókostir: Þægindi
Ókostir: Eyðsla
Hemlun í bleytu (15)
15
Hemlun í bleytu (15)
15
Grip í blaut beygja (10)
10
Grip í blaut beygja (10)
10
Akstur í bleytu (15)
15
Akstur í bleytu (15)
15
Flot (10)
8
Flot (10)
8
Flot í beygju (10)
8
Flot í beygju (10)
8
Hemlun á þurru (10)
10
Hemlun á þurru (10)
8
Akstur á þurru (10)
10
Akstur á þurru (10)
8
Eldsneytiseyðsla (10)
8
Eldsneytiseyðsla (10)
4
Veggnýr (5)
3
Veggnýr (5)
4
Þægindi (5)
2
Þægindi (5)
3
Samtals (100) 32
89
Samtals (100)
83
Sumardekk 3
4
BRIDGESTONE TURANZA T005
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
W(240 km/h) 91 (615 kg) 7,4 mm Vika 19, 2021 Pólland Betra Grip 32.691kr.
81
STIG
TOYO PROXES COMFORT
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
H(210 km/h) 94 (670 kg) 7,9 mm Vika 4, 2021 Japan Nesdekk 16.991 kr.
79
STIG
Turanza T005 er nær að blanda saman akstursánægju og lágu viðnámi við akstur. Dekkið lætur vel að stjórn og bregst örugglega við óvæntum uppákomum án tilhneigingar til undirstýringar.
Nýja Proxes Comfort dekkið frá japanska framleiðandanum Toyo tekur við af Proxes CF2. Það skipar sér í flokk meðal ódýrari dekkja í þessum prófunum en þó án þess frammistaðan fái að líða fyrir það.
Á þurru malbiki er bremsuvegalengd stutt og afbragðs stöðugleiki á hærri hraða. Prófanir á blautu yfirborði skiluðu einnig einum bestu niðurstöðum og dekkið stendur sig einstaklega vel í samanburði við prófanir fyrri ára .
Dekkið tekur sér stöðu framarlega í þeim prófunum sem voru lögð fyrir það með góða niðurstöður við hemlun og grip í hröðum beygju.
Neikvæðu niðurstöðurnar snúa að þægindum þar sem óþarflega mikið finnst fyrir ójöfnum á vegi og þegar ekið er á grófu yfirborði berst lágur gnýr inn í farþegarými. Að öðru leyti skila góðir akstureiginleikar öruggu þriðja sæti.
Dekkið er óaðfinnanlegt hvað varðar stöðugleika undir pressu bæði á blautum og þurrum vegi. Hins vegar á það í lítilsháttar basli þegar kemur að snöggum stefnubreytingum á auknum hraða.
Kostir: Lætur vel að stjórn, akstursánægja
Hvað varðar veggný eru niðurstöðurnar ágætar á sléttu yfirborði en heldur vaxandi hávaði eftir því sem það verður grófara. Heilt á litið er þetta gott dekk sérstaklega með tilliti til verðs.
Ókostir: Ójöfnur í vegi finnast vel, veggnýr
Kostir: Öruggt í akstri, flot í beygju Ókostir: Eldsneytiseyðsla
Hemlun í bleytu (15) Grip í blaut beygja (10) Akstur í bleytu (15) Flot (10) Flot í beygju (10)
12 8 15 8 10
Hemlun í bleytu (15) Grip í blaut beygja (10) Akstur í bleytu (15) Flot (10) Flot í beygju (10)
12 8 12 8 10
Hemlun á þurru (10)
8
Hemlun á þurru (10)
8
Akstur á þurru (10)
8
Akstur á þurru (10)
8
Eldsneytiseyðsla (10)
8
Eldsneytiseyðsla (10)
6
Veggnýr (5)
2
Veggnýr (5)
4
Þægindi (5)
2
Þægindi (5)
3
Samtals (100)
81
Samtals (100)
79 33
Sumardekk 5
6
MICHELIN PRIMACY 4
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
V(240 km/h) 91 (615 kg) 7,5 mm Vika 52, 2020 Pólland N1 / Costco
GOODYEAR EFFICIENTGRIP P.2
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
76
STIG
V (240 km/h) 91 (615 kg) 8,2 mm Vika 27, 2021 Pólland Klettur 22.990 kr.
75
STIG
Primacy hefur góða og náttúrulega akstureiginleika. Það er stöðugt og fyrirsjáanlegt sem skilar sér í góðri stýringu þrátt fyrir að vera komið út að þolmörkum hvað varðar grip. Í svigakstri helst gripið þrátt fyrir snöggar stefnubreytingar.
Orðið hafa breytingar til hins verra frá síðustu prófunum þar sem dekkið lenti í öðru sæti rétt á eftir sigurvegaranum. Gott grip á blautum vegi en stýring mætti vera nákvæmari. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvar maður hefur bílinn, sérstaklega undir álagi.
Í þessum prófunum er einnig tekin fyrir vistvænni útgáfa af sama dekki þ.e. e.Primacy og vekur athygli að mynsturdýpt Primacy 4 hefur aukist frá fyrra ári og hefur dekkið allra besta þol gegn floti í prófununum.
Á þurru er stýring kvik og eiga dekkin erfitt með að viðhalda stöðugleika við svigakstur og að auki er hemlun eingöngu í meðallagi.
Hins vegar veldur gúmmíblandan í dekkinu slökum niðurstöðum við akstur á blautu yfirborði. Það getur mögulega komið til vegna aukinna áherslna Michelin á endingu. Þá er hljóðvist dekksins ekki sú besta og eykst veggnýr eftir því sem vegur verður grófari. Michelin Primacy lendir í fimmta sæti að þessu sinni.
Þó eru nokkur jákvæð atriði við Efficientgrip P.2 þar sem viðnám er á pari við vistvænu dekkin og í samanburði við þau eru dekkin mun öruggara á vegi. Þau eru þægileg í akstri og veggnýr í lágmarki á grófum vegum. Að þessu leyti er Efficientgrip P.2 góð málamiðlun fyrir þá sem vilja fá jafnvægi milli eyðslu og öryggis.
Kostir: Auðkeyrt, flot
Kostir: Þægindi, flot, akstur á þurru malbiki
Ókostir: Grip í svigakstri í bleyti, veggnýr
Ókostir: Hemlun í bleytu
Hemlun í bleytu (15)
12
Hemlun í bleytu (15)
9 8
Grip í blaut beygja (10)
8
Grip í blaut beygja (10)
Akstur í bleytu (15)
9
Akstur í bleytu (15)
12
Flot (10)
10
Flot (10)
8
Flot í beygju (10)
10
Flot í beygju (10)
8
Hemlun á þurru (10)
8
Hemlun á þurru (10)
6
Akstur á þurru (10)
8
Akstur á þurru (10)
6
Eldsneytiseyðsla (10)
6
Eldsneytiseyðsla (10)
Veggnýr (5)
2
Veggnýr (5)
4
Þægindi (5)
3
Þægindi (5)
4
Samtals (100) 34
76
Samtals (100)
10
75
Sumardekk 7
8
NOKIAN HAKKA GREEN 3
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
V(240 km/h) 94 (670 kg) 7,9 mm Vika 30, 2021 Finnland Max1
CONTINENTAL ECOCONTACT6
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
60
STIG
V(240 km/h) 91 (615 kg) 6,7 mm Vika 25, 2021 Þýskaland BJB 19.505 kr.
57
STIG
Nýja vistvæna dekkið frá Nokian hefur mun betra grip á blautum vegi en hin vistvænu dekkin í þessum prófunum. Þrátt fyrir að hafa sömu mynsturdýpt og Hakka Blue 3 voru niðurstöður ekki jafn góðar.
Þrátt fyrir að PremiumContact 6 taki efsta sætið í þessum prófunum er vistvæna útgáfan fjarri góðu gamni í orðsins fyllstu merkingu þar sem það stoppar seint og illa á blautum vegi.
Hemlunarvegalengd er löng og er töluvert um undirstýringu á þurrum vegi. Við blautar aðstæður er dekkið ekki að skila afburða niðurstöðum en aksturslega séð gengur það upp.
Hemlunarvegalengd á blautu malbiki er rúmum fjórum metrum lengri en sambærilegt PremiumContact6 dekk miðað við 80 km/h og eykst munurinn enn frekar eftir því sem hraðinn verður meiri.
Dekkið heldur góðu jafnvægi með léttri undirstýringu og er hljóðlátast allra við akstur á grófum vegi.
Mynsturdýpt er fremur lág eða 6,7 mm sem veldur snemmbæru floti. Þegar kemur að akstri í þurru eru niðurstöðurnar ekki betri og getur það verið trekkt til að láta að stjórn. Aftur á móti er það fremur stöðugt eftir því sem að hraðinn eykst.
Að því sögðu er afsláttur af öryggi á kostnað lægri eyðslu ekki réttlætanlegur þar sem önnur öruggari dekk eru jafn sparsöm og ættu frekar að verða fyrir valinu.
Dekkið hefur lægsta viðnám í prófunum og veitir mestu þægindin við akstur en það dugir ekki til að réttlæta kaup á þessu dekki
Kostir: Veggnýr, nothæft grip í bleytu miðað við vistvæn dekk
Kostir: Lág eyðsla, þægindi
Ókostir: Hemlun, slakar eyðslutölur
Ókostir: Grip í bleytu, hemlun, aksturseiginleikar
Hemlun í bleytu (15)
6
Hemlun í bleytu (15)
6
Grip í blaut beygja (10)
6
Grip í blaut beygja (10)
4
Akstur í bleytu (15)
9
Akstur í bleytu (15)
6
Flot (10)
6
Flot (10)
6
Flot í beygju (10)
8
Flot í beygju (10)
6
Hemlun á þurru (10)
4
Hemlun á þurru (10)
6
Akstur á þurru (10)
4
Akstur á þurru (10)
6
Eldsneytiseyðsla (10)
8
Eldsneytiseyðsla (10)
Veggnýr (5)
5
Veggnýr (5)
4
Þægindi (5)
4
Þægindi (5)
3
Samtals (100)
60
Samtals (100)
10
57 35
Sumardekk 9
10
MICHELIN E.PRIMACY
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
W(270 km/h) 91 (615 kg) 6,1 mm Vika 11, 2021 Ítalía N1 / Costco 19.990 kr.
PETLAS IMPERIUM PT515
Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
48
STIG
Þetta franska dekk er sagt vera sérlega vistvænt og framleiðslan á því kolefnisjöfnuð. Samkvæmt tölum framleiðanda er skráð viðnám það lægsta meðal allra dekkja í prófununum en raunin var önnur þegar eyðslutölur voru bornar saman milli akstursprófana.
V(240 km/h) 91 (615 kg) 8,1 mm Vika 27, 2021 Tyrkland
41
STIG
Tyrkneska Petlas er eitt ódýrasta dekk sem hægt er að finna á markaðnum. Imperium PT515 er þó EKKI peningana virði. Bremsuvegalengd á 80 km/h á blautu malbiki er heilum 10 metrum lengri en hjá því besta í prófununum.
Í samanburði við Primacy4 hefur þetta dekk örlítið betra viðbragð við stýringu og stöðugleika á auknum hraða. Taka skal til greina að það er framleitt með þyngri bíla í huga.
Svigprófanir sýna fram á hversu erfitt dekkið á með að halda gripi og skortir allt jafnvægi. Á blautu malbiki er það óútreiknanlegt allt frá því að hafa undirstýringu inn í beygjur og að detta í yfirstýringu þegar langt er komið inn í beygju.
Á þurru malbiki er gripið aðeins slakara en Primacy4 en munurinn er umtalsvert meiri þegar kemur að blautum vegi . Slakt grip er í beygjum, fer fljótt á flot og skelfilega löng hemlunarvegalengd.
Ódýr dekk eru því miður oftast undir eldri og ódýrari bílum með minna af öryggisbúnaði. Það er slæm blanda og mikilvægt að spara peninginn í öðru en við dekkjakaup.
Tilraunir til að upphefja vistvæna þáttinn í dekkinu hefur verið tekin allt of langt. Skortur á öryggi er einfaldlega hættulega mikill.
Kostir: Þokkalegt á slæmum vegum Ókostir: Hemlun, lætur illa af stjórn við krefjandi aðstæður
Kostir: Viðnám, stöðugleiki, akstureiginleikar Ókostir: Grip í bleytu, flot, hemlun í bleytu
Hemlun í bleytu (15)
3
Hemlun í bleytu (15)
3
Grip í blaut beygja (10)
4
Grip í blaut beygja (10)
4
Akstur í bleytu (15)
3
Akstur í bleytu (15)
3
Flot (10)
4
Flot (10)
6
Flot í beygju (10)
4
Flot í beygju (10)
6
Hemlun á þurru (10)
8
Hemlun á þurru (10)
4
Akstur á þurru (10)
6
Akstur á þurru (10)
2
Eldsneytiseyðsla (10)
4
Eldsneytiseyðsla (10)
10
Veggnýr (5)
3
Veggnýr (5)
4
Þægindi (5)
3
Þægindi (5)
4
Samtals (100) 36
48
Samtals (100)
40