Skip to main content

Sumardekkjakönnun 2021

Page 1

SUMARDEKKJA SUMAR DEKKJA

könnun fíb 2021

27


Fólksbíladekk

Sumardekkjap Í sumardekkjakönnuninni í ár kemur í ljós að dýrari dekkin eru ekki alltaf besti kosturinn. Ódýrari hjólbarðarnir koma ágætlega frá sínu og má þar sérstaklega nefna Maxxis Premitara HP5 dekkin frá Tævan. Þessi dekk eru í ódýrari kantinum og skora jafnframt hæst í könnuninni í ár. Nesdekk er umboðsaðili Maxxis á Íslandi og eiga þeir von Premitara HP5 fyrir sumarið. Maxxis hefur verið einn af tíu stærstu dekkjaframleiðendum heims um all langt skeið. Þess má geta að reiðhjóladekk frá framleiðanda þessum hafa lengi verið á markaði en hann hefur hin síðustu ár verið að beina spjótum sínum að meira mæli á bílamarkaðinn.

Þekktir dekkjaframleiðendur á borð við Goodyear og Continental hafa oft áður skorað hærra í könnunum síðustu ára. Það sama má segja um Michelin en þessir framantöldu framleiðendur eru þó alltaf með góða vöru á boðstólnum hvað öryggi varðar. Eins og jafnan kemur gæðamunur fram í akstri í bleytu. Í könnuninni í ár er lagt mikið upp úr nýju hjólbarðamerkingunum, enn fremur þáttum sem lúta að mótstöðu, floti og veggný sem er stór þáttur hvað rafbíla varðar með tilliti til drægni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnuninni sem Motor, félagsblað hins

28Ljósmyndir: FREDRIK DIITS VIKSTRÖM

norska systurfélags FÍB, NAF, vann og hafði umsjón með. Þróunin á bíladekkjamarkaði er alltaf að verða harðari. Lítt þekktari framleiðendur eru að koma fram með betri dekk en áður og eru því að veita þeim stærri og þekktari mun meiri samkeppni. Könnunin norska blaðsins var gerð á átta tegundum nýrra sumarhjólbarða á Mireval Proving aksturssvæðinu í Suður-Frakklandi. Haustsólin skein alla dagana í könnuninni á prófunarsvæðinu sem staðsett er rétt fyrir utan borgina Montpellier. Loftslagið snemma í október var eins og norður-evrópskur sumardagur. Hitinn var


aprófun 2021 stöðugur, rétt undir 20 gráðum. Öll skilyrði voru eins og best verður á kosið í þá rúmlegu viku sem könnunin stóð yfir með fjölda endurtekinna prófana. Að þessu sinni voru átta mismunandi dekk prófuð í stærðinni 225/45 R17 sem passar undir margar gerðir bíla. Framleiðendur bjóða upp á tvær mismunandi gerðir dekkja, að teknu tilliti til verðs. Í þessari prófun voru valin dekk í HP–flokki sem framleidd eru fyrir flestar tegundir bifreiða. Þar má nefna dekk frá Goodyear, Pirelli, Continental, Michelin og Nokian. Dekk í ódýrari flokki eru Hifly HF805, Landsail Sentury Qirin 990 og Maxxis Premitira HP5. Ekki var tekið tillit til verðs á dekkjunum í prófinu.

Í prófinu var notaður viðmiðunarhjólbarði til að ganga úr skugga um hvort einhverjar ytri kringumstæður hafi áhrif á grip dekksins. Eins og áður kom fram getur ekkert dekk verið best í öllum þeim þáttum sem skoðaðir eru í prófinu. Svo að eitthvað

sé tekið úr prófinu kemur fram að lægsta mögulega veghljóðið kemur frá Goodyear Efficient Grip Performance. Með nýrri kynslóð af þessu dekki hefur Goodyear tekist að hækka aksturseiginleika upp á hæsta stig meðan dekkið er hljóðlátast allra, sérstaklega á slæmu malbiki. Eins og áður hefur komið fram, þegar staðið er frammi fyrir því hvaða hjólbarðar verða fyrir valinu, þarf ekki endilega að velja þá sem skoruðu hæst í könnuninni, miklu heldur hvaða tegund hentar þörfum, aðstæðum og efnahag þínum. Í könnun Motor kemur fram að í vissum tilfellum gæti það reynst sparnaður að velja ódýrari dekk frekar en úrvalsdekk. Motor gerði enga verðkönnun því að verðin eru ansi mismunandi milli söluaðila og hafa áhrif á söluherferðir og einnig hvaða árstíðir ganga yfir. 29


NÝJAR MERKINGAR Á DEKKJUM

Hvað þýða táknin? Frá og með 1. maí 2021 munu öll ný dekk sem seld eru í Evrópu bera nýjar merkingar. Þar koma aukalega fram upplýsingar varðandi eyðslu, veggný og grip í bleytu. Einnig er kominn QR kóði sem neytandi getur skannað og sótt sér enn ítarlegri upplýsingar varðandi viðkomandi dekk.

Grip við blautar aðstæður. Hemlunarvegalengd mæld frá 80-0 km/h. Einkunn á bilinu A-E og skilja 3 metrar á milli A og B og síðan C o.s.frv. Þannig má áætla að dekk með A einkunn nái að hemla 12 metrum skemur en E flokkur.

Hemlunarvegalengd Hemlun er skilgreind á bilinu A-E þar sem A er stysta hemlun. Eyðsla Hér er viðnám dekkja mælt og gefin einkunn frá A-E þar sem A er lægsta eyðsla. Munur á milli bestu og verstu einkunnar er mæld á bilinu 0,6 lítrar á 100 km.

Veggnýr Mæling á veggný sem dekkin gefa frá sér er settar fram með einkunn á bilinu A-C. Þá er einnig tekið fram nákvæm desibil (dB) mæling sem er mæld við akstur fyrir utan bílinn.

30

Vetrardekk Búið er að bæta merkingar varðandi getu dekks til að aka í vetraraðstæðum. Fjall með snjókorni gefur til kynna að dekkið sé hæft við vetraraðstæður í mildara loftslagi. Fjall með snjótopp þýðir að dekkið sé betur fallið til aksturs við erfiðari vetraraðstæður.


Mikilvæg atriði í prófuninni Hemlun Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna er vægi aksturs og hemlunar í bleytu þyngst. Einkunnir hvers hjólbarða eru reiknaðir út frá meðaltali allra mældra hemlunarvegalenda á þurru annars vegar og blautu malbiki hins vegar. Veggrip Veggrip hjólbarðanna er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri akstursbraut. Aksturinn og mælingarnar eru margar og endurteknar og margir ökumenn annast aksturinn. Brautin er fjölbreytt og krefst hröðunar, hemlunar og krappar beygjur eru á henni. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautartímamælinga. Aksturstilfinning Margir tilraunaökumenn meta á eigin forsendum hvernig hver hjólbraðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og í ýmsum mismunandi akstursaðstæðum, eins og hvað gerist þegar bíllinn skrikar, hvernig gerist það og hversu erfitt eða létt er að ná aftur fullri stjórn á bílnum. Slíkar aðstæður koma oft upp í akstri í umferðinni. Um er að ræða blindpróf, það er að segja að ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir bifreiðinni hverju sinni. Flotun Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Skráður er sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar veggripið hefur algerlega tapast. Veggnýr Veggnýrinn er bæði mældur með mælitækjum og metinn af ökumönnum. Ekið er eftir vegi með grófu vegyfirborði. Ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir bílnum hverju sinni. Núningsmótstaða Núningsmótstaða hjólbarða er mæld í sérstökum tækjabúnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnstu mótsstöðu (rennur lengst). Einkunnin er útreiknuð sem aukin eldsneytiseyðsla. 31


Sumardekk 1

2

MAXXIS PREMITRA HP5

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

W(270 km/h) 94 (670 kg) 7,3 mm Vika 23, 2020 Kína Nesdekk Væntanlegt

85

STIG

Maxxis Premitra HP5 frá tævanska framleiðandanum Maxxis (sem er einn af 10 stærstu dekkjaframleiðendum í heimi) hefur fengið fjölmargar jákvæðar uppfærslur hin seinustu ár. Hér eru því komin dekk með góða akstureiginleika á góðu verði. Akstur á þurru malbiki, stöðugleiki og viðbragð í stýri er eins og best verður á kosið. Þegar ekið er í bleytu heldur dekkið enn góðu gripi og lætur vel að stjórn. Að auki nær það bestu einkunn þegar kemur að floti. Hemlunarvegalengd er ásættanleg þrátt fyrir að skipa sér ekki í efstu sætin í samanburðarmælingum. Aðeins hallar undan fæti þegar kemur að veggný og fjöðrun á grófu undirlagi en þar stendur dekkið síst í þeim þáttum sem prófaðir voru. Til eru þægilegri dekk en þegar horft er til grips í beygjum og flots á blautu yfirborði landar Premitra HP5 titlinum sumardekk ársins.

GOODYEAR EFFICIENT GRIP PERFORMANCE 2

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

W(270 km/h) 94 (670 kg) 8,1 mm Vika 25, 2020 Pólland Klettur 27.990 kr.

84

STIG

Nýjasta uppfærsla hefur gefið dekkinu betra viðbragð upp í stýri og í stað þess að lenda í undirstýringu þá er komið aukið jafnvægi þrátt fyrir mikið álag. Aukið viðbragð og auðvelt í akstri, jafnt á blautu sem þurru yfirborði. Þrátt fyrir hraða og ákveðinn akstur er ekki gefinn afsláttur af þægindum. Þetta er rétta dekkið fyrir þá sem sækjast eftir hljóðlátum og þægilegum aksturseiginleikum. Ágætis einkunn í hemlunar- og flotprófum skila dekkinu öðru sæti. Kostir: Lágur veggnýr, grip í beygju, viðbragð og lágt viðnám. Ókostir: Flot og bremsuvegalengd

Og þá er ekki búið að taka inn í dæmið hversu ódýrt það er. Kostir: Góðir akstureiginleikar, viðbragð í stýri og flot Ókostir: Veggnýr, fjöðrun á ójöfnum vegi. Hemlun í bleytu (15)

9

Hemlun í bleytu (15)

9

Grip í blaut beygja (10)

10

Grip í blaut beygja (10)

10

Akstur í bleytu (15)

15

Akstur í bleytu (15)

15

Flot (10)

10

Flot (10)

8

Flot í beygju (10)

10

Flot í beygju (10)

6

Hemlun á þurru (10)

8

Hemlun á þurru (10) Akstur á þurru (10)

8 10

Akstur á þurru (10)

10 10

Eldsneytiseyðsla (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

5

Þægindi (5)

2

Þægindi (5)

3

Samtals (100) 32

85

Samtals (100)

84


Sumardekk 3

4

CONTINENTAL PREMIUMCONTACT 6

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

Y(300 km/h) 94 (670 kg) 7,5 mm Vika 28, 2020 Kína BJB Pústþjón. 23.095 kr.

81

STIG

Þegar var ljóst að þetta dekk er í góðu jafnvægi og þægilegt í akstri, afturdekk láta vel að stjórn þrátt fyrir aukin hraða og álag. Þessir þættir gerðu einmitt dekkinu kleift að ná hraðasta hring í blautri braut.

NOKIAN HAKKA BLUE 2

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(270 km/h) 94 (670 kg) 6,9 mm Vika 17, 2020 Rússland Max 1 Ekki til

81

STIG

Gott grip við akstur í miklu vatni, stutt bremsuvegalengd og þegar kemur að beygjum sýnir Hakke Blue 2 bestu hliðar sínar.

Niðurstöður úr bremsuprófunum auka einnig hróðurinn en dekkið náði bestri einkunn bæði á þurru og blautu.

Dekkið veitir góða öryggistilfinningu og lætur auðveldlega að stjórn. Gott grip á blautu yfirborði næst fram á kostnað grips við þurrar aðstæður.

Hins vegar á dekkið í vandræðum þegar fer að auka á vatnsmagnið. Dekkið náði verstum árangri við mælingar á floti.

Hemlunarvegalengd er með þeim verstu í prófunum og í kröppum beygjum verður dekkið mjúkt og ónákvæmt.

Ökumaður verður frekar var við ójöfnur í vegi og veggnýr er í hærra lagi.

Hins vegar er dekkið eitt það hljóðlátasta á ójöfnu yfirborði og einnig það mýksta.

Stutt hemlunarvegalengd, góðir akstur eiginleikar og öryggistilfinning landa þriðja sæti.

Gott grip við blautar aðstæður og þægindi skila dekkinu í fjórða sæti nokkrum stigum frá því fyrsta.

Kostir: Grip í svig akstri, auðvelt að stýra undir álagi, stutt bremsuvegalengd.

Kostir: Þægindi, grip á blautu malbiki Ókostir: Viðnám, grip á þurrum vegi.

Ókostir: Flot í beygju, miðlungs þægilegt.

Hemlun í bleytu (15) Grip í blaut beygja (10) Akstur í bleytu (15)

15 8 15

Hemlun í bleytu (15)

12

Grip í blaut beygja (10)

10

Akstur í bleytu (15)

15 10

Flot (10)

8

Flot (10)

Flot í beygju (10)

4

Flot í beygju (10)

8

Hemlun á þurru (10)

6

Hemlun á þurru (10)

10

Akstur á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

6

Eldsneytiseyðsla (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

6

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

2

Þægindi (5)

4

Samtals (100)

81

Samtals (100)

81 33


Sumardekk 5

6

MICHELIN PRIMACY 4

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(270 km/h) 94 (670 kg) 7,8 mm Vika 17, 2020 Ítalía N1 24.990 kr.

PIRELLI P7 CINTURATO (C2)

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

78

STIG

Y (300 km/h) 94 (670 kg) 6,9 mm Vika 1, 2020 Rússland Nesdekk 21.990 kr.

Pirelli heldur sama P7 Cinturato nafninu að viðbættu C2 sem er skrifað með litlum stöfum á hlið dekkjanna.

Einkunnarorð Michelin eru „Long Lasting Performance“ eða „gæði sem endast“. Til þess að tryggja endingu á eiginleikum opnast upp breiðari raufar eftir því sem dekkið slitnar. Og þörf er á því, því mynsturdýptin á dekkinu er aðeins 6,3 mm.

Dekkin njóta sín allra best á þurru malbiki og láta best að stjórn af öllum dekkjum sem voru til prófunar.

Bæði Nokian og Goodyear hafa aukalega meira en 1,5 mm dýpra mynstur. Þrátt fyrir þetta stendur Primacy sig vel þegar komur að floti. Grynnra mynstur skilar lægra viðnámi og styttri bremsuvegalengd. Michelin er með lægsta viðnám í mælingum og skilar stuttri hemlun bæði í vætu og þurru.

Kostir: Öryggistilfinning, lætur vel að stjórn og lágt viðnám

Slök frammistaða á blautu malbiki skilaði dekkinu sjötta sæti. Kostir: Mikil þægindi, flot, aksturseiginleikar á þurru malbiki. Ókostir: Hemlunarvegalengd í bleytu.

Ókostir: Grip til hliðar

Akstur í bleytu (15)

Einnig fékk dekkið góða einkunn þegar kom að þægindum og viðnámi.

Þá var einnig skortur á gripi í beygjum og var tilhneiging til að missa óvænt grip á framhjólum.

Aðeins miðlungs þægindi skila dekkinu þó fimmta sæti.

Grip í blaut beygja (10)

Ökumaður á auðvelt með að staðsetja bílinn á veginum þrátt fyrir mikið álag.

Dekkið skilar þokkalegri niðurstöðu þegar kemur að floti en hemlun í bleytu var ekkert til að hrópa húrra yfir.

Það vantar örlítið upp á þegar kemur að gripi til hliðanna en Primacy 4 heldur samt öryggi og stöðugleika undir álagi.

Hemlun í bleytu (15)

74

STIG

12 6 12

Hemlun í bleytu (15)

6

Grip í blaut beygja (10)

8

Akstur í bleytu (15)

12

Flot (10)

8

Flot (10)

8

Flot í beygju (10)

8

Flot í beygju (10)

8

Hemlun á þurru (10)

8

Hemlun á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

Eldsneytiseyðsla (10)

10

10

Eldsneytiseyðsla (10)

6

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

3

Þægindi (5)

4

Samtals (100) 34

78

Samtals (100)

74


Sumardekk 7

8

LANDSAIL SENTURY QIRIN 990

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(270 km/h) 94 (670 kg) 7,1 mm Vika 23, 2020 Kína Sólning Ekki til

HIFLY HF805

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

59

STIG

W(270 km/h) 94 (670 kg) 7,4 mm Vika 23, 2020 Kína

41

STIG

Hér er algjör hörmung á ferð, jafnvel þótt dekkin séu kynnt sem sportleg UHP dekk (Ultrahigh performance) með M+S (leðja og snjór) merkingum! Hemlunarvegalengd í bleytu er sú versta í prófununum, meira en tveimur metrum lengri en næstversta dekkið.

Nokkrir þættir gera Landsail dekkið sérstaklega áhugavert: lágt verð, fyrsta einkunn við hemlun í bleytu og lægsta uppgefna veggný af öllum dekkjum sem voru prófuð (66 dB). Við getum staðfest að dekkin samsvöruðu sér vel í samburði við dýrari dekk þegar kom að hemlun í bleytu en í þurru á Continental vinninginn. Hljóðvist í farþegarými er ágæt en ekki sú besta í prófununum.

Dekkið fær eina verstu útkomu af öllum dekkjum sem áður hafa verið prófuð. Akstur í bleytu er krefjandi og gripið slakt í beygjum. Á þurru stenst dekkið ekki kröfur og í sveigjum og beygjum má búast við að missa bílinn í hliðarskrið.

Því miður voru akstureiginleikar einungis í meðallagi. Á þurrum vegi getur það verið óútreiknanlegt og stundum tekið stjórnina af ökumanni. Í bleytu fer það að fljóta fullsnemma.

Mikill veggnýr og viðnám ásamt lélegri dempun yfir ójöfnur staðfestir að dekkið skortir allan styrk.

Dekkið hefur mikla tilhneigingu til undirstýringar sem um leið skilar stöðugri afturenda og dregur úr hættu á að afturendinn fari af stað.

Fyrst og fremst er þetta góð áminning um hversu vond ódýr dekk geta í raun verið.

Á heildina litið er Qirin 990 að skora þokkalega en nær einungis sjöunda sæti þrátt fyrir að veita öruggan akstur.

Kostir: Engir

Kostir: Stutt hemlunarvegalengd jafn í bleytu sem og þurru, hljóðlátt.

Forðast skal kaup á þessu dekki! Ókostir: Almenn lélegt grip, lætur illa að stjórn við krefjandi akstur.

Ókostir: Óspennandi aksturseiginleikar, stöðugleiki í beygjum og slakt viðbragð. Hemlun í bleytu (15)

9

Hemlun í bleytu (15)

3

Grip í blaut beygja (10)

6

Grip í blaut beygja (10)

4

Akstur í bleytu (15)

9

Akstur í bleytu (15)

6

Flot (10)

4

Flot (10)

6

Flot í beygju (10)

4

Flot í beygju (10)

4

Hemlun á þurru (10)

8

Hemlun á þurru (10)

6

Akstur á þurru (10)

4

Akstur á þurru (10)

2

Eldsneytiseyðsla (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

6

Veggnýr (5)

4

Veggnýr (5)

2

Þægindi (5)

3

Þægindi (5)

2

Samtals (100)

59

Samtals (100)

41 35


Hámarksstig

Continental

Nokian

Goodyear

Nordman

Sava

Yokohama

Samanbdekk

Leao

Ónegld dekk

Hröðun á ís

5

5

4

4

4

3

3

2

2

Hemlun á ís

15

15

15

9

15

9

9

3

6

Akstur á ís

15

15

15

9

12

9

9

6

6

Stig á ís

35

35

34

22

31

21

21

11

14

Hröðun í snjó

5

5

4

4

4

4

3

2

3

Hemlun í snjó

10

10

8

8

8

8

8

4

6

Akstur í snjó

10

10

8

8

6

4

6

4

4

Stig í snjó

25

25

20

20

18

16

17

10

13

Hemlun í bleytu

10

8

10

10

4

6

4

10

4

Akstur í bleytu

5

3

4

5

3

4

3

5

3

Flot

5

2

2

5

2

4

2

5

4

Stig í bleytu

20

13

16

20

9

14

9

20

11

Hemlun í þurru

5

5

4

4

3

3

3

5

3

Akstur í þurru

5

3

3

4

2

4

3

5

1

Stig í þurru

10

8

7

8

5

7

6

10

4

Viðnám

5

3

4

5

4

4

4

3

3

Veggnýr

5

5

3

5

4

4

4

2

3

Samtals

100

89

84

80

71

66

61

56

48

1

2

3

4

5

6

7

8

Sæti HRÖÐUN Á ÍS

HEMLUN Á BLAUTUM VEGI

Hröðun frá 5-25 km/h mælt í sekúndum

AKSTUR Á ÍS

Brautarakstur mælt í sekúndum

ABS hemlun úr 25 - 5 km/h mælt metrum

Continental

5,16

Continental

10,64

Continental

34,5

Nokian

5,76

Nordman

10,83

Nokian

34,5

Goodyear

6,25

Nokian

10,84

Nordman

35,5

Nordman

6,28

Sava

11,48

Yokohama

34,5

Sava

6,55

Yokohama

11,49

Goodyear

34,5

Yokohama

6,65

Goodyear

11,75

Sava

36,2

Leao

7,45

Leao

12,31

Leao

36,6

Samanb.dekk

7,61

Samanb.dekk

14,15

Samanb.dekk

34,5

HRÖÐUN Í SNJÓ

HEMLUN Í SNJÓ

Hröðun frá 5-40 km/h mælt í sekúndum

AKSTUR Í SNJÓ

ABS hemlun úr 40 - 5 km/h mælt metrum

Brautarakstur mælt í sekúndum

Continental

4,05

Continental

16,9

Continental

85,59

Nokian

4,24

Sava

17,5

Goodyear

86,12

Nordman

4,28

Nokian

17,7

Nokian

87,04

Sava

4,29

Goodyear

17,8

Nordman

89,17

Goodyear

4,3

Yokohama

17,9

Yokohama

89,42

Yokohama

4,41

Nordman

18,1

Samanb.dekk

90,81

Leao

4,42

Leao

18,3

Leao

91,31

Samanb.dekk

4,55

Samanb.dekk

18,9

Sava

92,02

HEMLUN Í BLEYTU

Samanb.dekk Nokain Goodyear Continental

FLOT

HEMLUN Í ÞURRU

Hemlun úr 80 - 0 km/h

Hemlun úr 100 - 0 km/h 26,6 30 30,5 31

Samanb.dekk Continental Nokian Goodyear

Mældur hraði við flot í 9 mm. vatni 41,9 43

Samanb.dekk

74,9

Goodyear

70,4

44,8

Sava

65

45

Leao

62,8

Sava

32,8

Yokohama

46,3

Nokian

58,5

Yokohama

33,6

Nordman

46,4

Nordman

58,4

Leao

33,8

Sava

46,6

Yokohama

57,6

34,1

Leao

46,8

Continental

36Nordman

57


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook