Skip to main content

Sumardekkjakönnun 2020

Page 1

SUMARDEKKJA SUMAR DEKKJA

könnun fíb 2020

29


Jepplingadekk

Sumardekkjaprófun 2020 E

30

ins og oft áður eru það dýrari hjólbarðar sem koma hvað best út úr nýrri gæða- og öryggiskönnun á sumarhjólbörðum 2020. Ódýrari hjólbarðarnir koma samt ágætlega frá sínu. Gæðamunurinn kemur sérstaklega fram í akstri í bleytu. Þetta er þess meðal annars sem fram kemur í könnuninni sem , Motor, félagsblað hins norska systurfélags FÍB, NAF, vann og hafði umsjón með. Könnunin var gerð á átta tegundum nýrra sumarhjólbarða á Mireval Proving aksturssvæðinu í S-Frakklandi í bjartviðri og hitastigið var rétt yfir 20 gráður. Í könnuninni að þessu sinni voru sérstaklega prófaðir hjólbarðar undir svokallaða jepplinga á borð við Toyota RAV4, Honda CR-V, Mazda CX5, BMW X3 og Subaru Outback. Jepplingar eru orðnir jafnvel vinsælli en hinn venjulegi fjölskyldubíll og m.a. af þeim sökum ákvað Motor að prófa jepplingadekk sérstaklega í könnuninni að þessu sinni.

komið vel frá könnunum á síðustu árum. Nokian og Bridgestone koma í næstu sætum.

Dekkin frá Michelin og Goodyear koma mjög vel frá þessari könnun hvað jepplingadekkin áhrærir og ætti svo sem ekki að koma óvart en þau hafa jafnan

Motor, sem vann könnunina gerði enga verðkönnun, því verðin eru ansi mismunandi milli söluaðila og hafa áhrif á söluherferðir og hvaða árstíðir eru í gangi.

Þegar staðið er frammi fyrir því hvaða hjólbarðar verða fyrir valinu þarf ekki endilega að velja þá sem skoruðu hæst í könnuninni. Miklu heldur hvaða tegund hentar þínum þörfum, þínum aðstæðum og þínum efnahag. Í könnun Motor kemur fram að í vissum tilfellum gæti það reynst sparnaður að velja ódýran dekk frekar en úrvals dekk. En fyrri prófanir í Motor hafa sýnt að nokkur ódýrari dekkin eru ekki sem skildi að standast væntingar á blautu malbiki Við prófanirnar voru notast við tvennskonar tegundir bíla. Annars vegar var VW Tiguan sem nýttur til hemlaprófana og mælinga á eldsneytisnotkun. BMW X3 20D xDrive var notaður til prófana á akstursbraut. ABS kerfi bílsins var virkt en slökkt var á skriðvörn.


Jepplingadekk voru prófuð í sumarhjólbarðaprófinu í ár eins og áður kom fram. Í fyrra voru prófuð venjuleg fólksbíladekk (úrvals dekk) og árið þar áður voru það dekk í ódýrari kantinum. Dekkin sem áður voru prófuð eru enn til sölu. Mjög litlar breytingar kunna að hafa verið gerðar á sumum þeirra en fyrir utan þessa eru niðurstöður fyrri prófana enn mikilvægar. Hægt er að sjá þær prófanir inn á vefsvæði FÍB. Þegar stigin eru skoðuð geturðu ekki borið saman stigin milli prófanna tveggja eða prófsins í ár. Hjólbarðarnir eru prófaðir á móti hvor öðrum og á viðmiðunarhjólbarða hvert próf, og stigin gefin í samræmi við það.

Stærsti almenni munurinn á úrvals dekkjum og ódýrari dekkjum er grip á malbiki. Sem dæmi má nefna Continental ContipremiumContact 5 (2018) sem voru með hemlunarvegalengd 54,67 metra miðað við 100 km/klst. Meðaltal hemlunarvegalend ódýrari dekkjanna vorur rúmir 66 metrar. Á þurru malbiki tekst ódýrari dekkjum að líta nokkuð vel út. Hins vegar er ekki hægt að bera saman niðurstöður hjólbarðaprófanna með beinum hætti. Prófin eru keyrð á mismunandi brautum og við mismunandi aðstæður. Continental ContipremiumContact 5 til viðmiðunar skoraði 88 stig í þessu prófi - yfir tvöfalt fleiri en ódýrasta dekkið. Það segir svolítið til um muninn.

Svona eru dekkin prófuð Hemlun Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu og mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna er vægi aksturs og hemlunar í bleytu þyngst. Einkunnir hvers hjólbarða eru reiknaðir út frá meðaltali allra mædra hemlunarvegalenda á þurru annars vegar og blautu malbiki hins vegar Almennt veggrip Veggrip hjólbarðanna er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri akstursbraut. Aksturinn og mælingarnar eru margar og endurteknar og margir ökumenn annats aksturinn. Brautin er fjölbreytt og krefst hröðunar, hemlunar og krappar beygjur eru á henni. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautartímamælinga

Aksturstilfinning Margir tilraunaökumenn meta hver fyrir sig hvernig hver hjólbarðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og í ýmsum mismunandi akstursaðstæðum, eins og hvað gerist þegar bíllinn skrikar og hvernig gerist það og hversu erfitt eða létt er að ná aftur fullri stjórn á bílnum. Slíkar aðstæður koma oft upp í akstri í umferðinni. Um era ð ræða blindpróf, það era ð segja að ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðartegund er undir bifreiðinni hverju sinni.

Veggnýr Vegdynurinn er bæði mældur með mælitækjum og metinn af ökumönnum. Ekið er eftir vegi með grófu vegyfirborði. Ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir bílnum hverju sinni Núningsmótstaða Núningsmótstaða hjólbarðanna er mæld í sérstökum tækjabúnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnsta mótsstöðu (rennur lengst). Einkunnin er útreiknuð aukin eldsneytiseyðsla.

Flotun Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar veggripið hefur algerlega tapast, er skráður 31


Jepplingadekk 1

2

MICHELIN PILOT SPORT 4 SUV

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

V(240 km/h) 100 (800 kg) Vika 25, 2019 Pólland Costco / N1 32.499 / 35.990

91

GOODYEAR EAGLE F1 ASYMMETRIC 5 SUV

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

Y(300 km/h) 104 (900 kg) Vika 25, 2019 Þýskaland Klettur kr.

STIG

Michelin Pilot Sport 4 er nýjasta afurð Michelin og var öruggur sigurvegari í prófunum með hæsta skor 91 stig. Pilot Sport var kynnt á markaði vorið 2019. Það skarar framúr í prófunum og þá sérstaklega við hemlun jafnt á þurru og blautu malbiki. Michelin var með fullt hús stiga í öllum prófunum á blautum vegi. Þá er það sérstaklega gott þegar kemur að lágmörkun á floti, gripi í beygjum og afbragðs góða akstureiginleika þar sem öryggi og jafvægi gildir þar til dekkið er komið að þolmörkum hvað varðar grip. Einnig fær dekki fullt hús stiga við akstur á þurru malbiki. Dekkið skilar góðu jafvægi milli öryggis og aksturseiginleika þrátt fyrir að hafa ekki jafn góð viðbrögð við stýringu eins og Bridgestone og Goodyear.

88

STIG

Sportlegt og öruggt jeppadekk. Goodyear fær góða einkun fyrir þægindi og lendir í öðru sæti. Asymmetric 5 tók við af Asymmetric 3 árið 2018, og á seinasta ári kom síðan jeppa útgáfan af dekkinu. Þessi nýja útgáfa er jafn sportlegt í akstri og öruggt með ögn af tilheignu til undirstýringar þegar það er komið að þolmörkum við að missa grip. Viðbragð upp í stýri er ekki jafn mikið og eins og á Bridgestone og Goodyear og þarf ívið meiri stýringu inn í beygjur. Goodyear fær afbragðs einkunn í öllum prófunum og þá sérstaklega þegar kemur að floti í beygjum. Dekkið nær ekki jafn góðum árangri og Michelin þegar kemur að bremsuvegalengd en á móti veitir það meiri þægindi og örlítið minni viðnám sem skilar sér í lægri eyðslu.

Eini ókostur er veggnýr.

Þegar allt er tekið saman lendir Goodyear í öðru sæti, aðeins þremur stigum á eftir fyrsta sæti.

Kostir: Gott alhliða dekk í þurrum og blautum aðstæðum.

Kostir: Viðráðanlegt og lætur vel að stjórn undir álagi. Riður vatni vel frá sér og fer síður að fljóta.

Ókostir: Veggnýr og hátt verð.

Ókostir: Hátt verð

Hemlun á blautum vegi

15

Hemlun á blautum vegi

12

Akstureiginleikar á blautum vegi

15

Akstureiginleikar á blautum vegi

15

Grip í beygju á blautum vegi

10

Grip í beygju á blautum vegi

10

Flot

10

Flot

Flot í beygju

10

Flot í beygju

Hemlun á þurrum vegi

10

Hemlun á þurrum vegi

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

10

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

8 10 8 10

Eldsneytiseyðsla

6

Eldsneytiseyðsla

8

Veggnýr

2

Veggnýr

4

Núningsmótstaða

3

Núningsmótstaða

3

32


Jepplingadekk 3

4

NOKIAN HAKKA BLUE 2 SUV

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

H(210 km/h) 104 (900 kg) Vika 23, 2019 Rússland MAX1 kr.

78

BRIDGESTONE TURANZA T005

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

V(240 km/h) 100 (800 kg) Vika 26, 2019 Frakkland Betra Grip kr.

74

STIG

STIG

Nokian dekkið sýnir sinn besta styrk við akstur í bleytu.

Sigurvegari með eldsneytiseyðslu.

Eins og með fólksbíladekkin frá Nokian sýnir það góðar niðurstöður í prófunum á blautri braut.

Bridgestone býður upp á breitt úrval jeppadekkja. Í þessum prófunum var tekið fyrir Turanza T005 sem er líklegast að standa sig best við venjulegan vegaakstur.

Dekkið hefur stutta bremsuvegalengd, riður vatni vel frá sér og afbragðs grip með hliðunum. Á þurru mabliki er bresmuvegaleng góð og dekkið er nákvæmt og skilar góðri tilfinningu til ökumanns. Það svarar fljótt við upp í stýri og auðvelt að halda stjórn þrátt fyrir að vera á þolmörkum hvað varðar grip. Hakka Blue er fyrirgefur einnig best þegar kemur að slæmu og grófu undirlagi.

minnst

viðnám

og

lægstu

T005 dekkið skilar góðri aksturánægju, með kviku stýrisviðbragði og átaklaust í beygjum þar sem lítið sem ekkert var um undirstýringu. Dekkið nýtur sín best á þurru malbiki þar sem það fær topp einkunn jafnt í styttri bremsuvegalengd og aksturs eiginleikum. Að auki býður það upp á lægstu eldsneytiseyðslu af þeim dekkjum sem prófuð voru.

Góð einkunn í öllunm prófunum skilar dekkinu í þriðja sæti.

Á blautum vegi skoraði dekkið einnig hátt í styttri bremsuprófunum og hliðargripi.

Kostir: Lætur vel að stjórn undir álagi, þægindi.

Því miður voru niðurstöðurnar við mælingar á floti dekkinu ekki í hag. Þægindi eru heldur ekki þau bestu. Dekkið er hávært og stíft á ójöfnum vegi. Dekkið hafnar því í fjórða sæti.

Ókostir: Bremsuvegalengd á þurru malbiki..

Kostir: Viðbragð, eiginleikar í beygjum, lág eyðsla. Ókostir: Flot, veggnýr.

Hemlun á blautum vegi

12

Hemlun á blautum vegi

12

Akstureiginleikar á blautum vegi

12

Akstureiginleikar á blautum vegi

12

Grip í beygju á blautum vegi

8

Grip í beygju á blautum vegi

8

Flot

8

Flot

4

Flot í beygju

8

Flot í beygju

4

Hemlun á þurrum vegi

6

Hemlun á þurrum vegi

10

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

8

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

10

Eldsneytiseyðsla

8

Eldsneytiseyðsla

10

Veggnýr

4

Veggnýr

2

Núningsmótstaða

4

Núningsmótstaða

2 33


Jepplingadekk 5

6

VREDESTEIN ULTRAC SATIN

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(270 km/h) 104 (900 kg) Vika 9, 2019 Ungverjaland BJB 30.410 kr.

PIRELLI SCORPION VERDE

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

67

H(210 km/h) 100 (800 kg) Vika 22, 2019 Ítalía Barðinn 35.990 kr.

STIG

55

STIG

Vredestein dekkin er ekki þau verstu en heldur ekki þau bestu.

Pirelli Scorpion Verde er að hellast og lestinni og spurning hvort það sé kominn tími á nýja hönnun?

Hollenski framleiðandinn af Vredestein hefur fengið veglegan meðbyr frá Indverska dekkjaframleiðandum Apollo. Ultrac Satin komu fyrst á markað 2016 og eru einnig í boði fyrir fólksbíla.

Scorpio Verde hefur verið á markaði síðan 2010. Þrátt fyrir að hafa fengið uppfærslur í gegnum árin þá tekst því ekki að keppa við þau bestu á markaðnum.

Dekkið skilar góðum niðurstöðum þegar kemur að flotun, en ekki jafn gott við hemlun og hliðargrip á blautu malbiki. Undir álagi eru það afturdekkin sem missa grip fyrst en auðvelt er að stýra bílnum þrátt fyrir hliðarskrið.

Þetta kemur best í ljós á blautu malbiki þar sem hliðargrip er í slakara lagi. Gripið getur horfið án fyrirvara og því getur akstur orðið óútreiknanlegur við krefjandi aðstæður á blautum vegi. Scorpion Verde sýnir einnig slaka frammistöðu þegar kemur að floti og þá sérstaklega í beygju.

Betra jafvægi næst við akstur í þurru. Dekkið skilar öruggum akstri en skortir nákvæmni upp í stýri.

Á þurrum vegi stendur dekkið sig betur og veitir góða svörun og þæginlegan akstur.

Þægindi eru góð og veggnýr ásættanlegur. Dekkin eru ekki alslæm en ná heldur ekki að skila jafn góðum einkunum og dekkin í topp sætunum. Því vermir Ultrac Satin fimmta sætið.

Dekkið mældist með lága núningsmótstöðu og eyðslu. En á móti var aukinn veggnýr og óþægindi þegar ekið var á ójöfnum vegi.

Kostir: Flot, þægindi, almennt gott.

Kostir: Eldsneytiseyðsla, akstur á þurrum vegi. Ókostir: Grip á blautum vegi, flot, getur misst grip án fyrirvara á blautum vegi..

Ókostir: Bremsuvegalengd yfir meðallagi.

Hemlun á blautum vegi

9

Hemlun á blautum vegi

9

Akstureiginleikar á blautum vegi

9

Akstureiginleikar á blautum vegi

6

Grip í beygju á blautum vegi

6

Grip í beygju á blautum vegi

6

Flot

8

Flot

4

Flot í beygju

8

Flot í beygju

4

Hemlun á þurrum vegi

6

Hemlun á þurrum vegi

6

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

8

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

8

Eldsneytiseyðsla

6

Eldsneytiseyðsla

8

Veggnýr

3

Veggnýr

2

Núningsmótstaða

4

Núningsmótstaða

2

34


Jepplingadekk 7

8

NANKANG AS-1

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(270 km/h) 100 (800 kg) Vika 51, 2018 Kína Sólning kr.

Samanb.dekk CONTINENTAL CONTICROSSCONTACT LX2

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

43

V(240 km/h) 100 (800 kg) Vika 52, 2018 Kína BJB kr.

Þú færð það sem þú greiðir fyrir, ódýrt dekk frá Kína sem fellur á flestum prófunum. Nankang býður einnig upp á AS-1 í stærðum fyrir fólksbíla. Því miður þá er frammistaða dekksins verst þegar þörfin er mest á gripi við kerfjandi aðstæður. Á blautu malbiki var það einungis Continental heilsárdekkið sem hafði lengri bremsuvegalengd. og meira flot en Nankang. AS-1 var með versta hliðargrip af öllum dekkjunum þegar koma að akstri á blautum vegi og hefur tilheigingu til yfirstýringar og losar afturhjól. Dekkið er betra á þurrum vegi en nákvæmni í stýri og akstur í beygjum er samt slakara en keppnautarnir. Að þessu sögðu lendir Nankang AS-1 í neðsta sæti nokkrum stigum fyrir ofan heilsárs samanburðardekkið. Kostir: Verð, missir grip jafnt og fyrirsjáanlega Ókostir: Almennt lélegt grip, .auðvelt að fara í hliðarskrið.

40

STIG

STIG

Á röngum stað og röngum tíma, ef þú ert í leit að nýjum dekkjum undir jeppann þá eru þetta ekki dekk fyrir þig. CrossContact er í boði í nokkrum útfærslum. LX2 dekkið er hannað fyrir léttann utanvega akstur. En fyrir þá sem vilja fá gott grip á grófum vegum þurfa að slá af kröfum um góða aksturseiginleika og öryggi við akstur á malbiki. Bremsuvegalengdin er sú lengsta af öllum dekkjum sem voru prófuð og var bremsuvegalengdin rúmlega bíllengd lengri en bestu dekkin jafnt á blautum sem þurrum vegi. Að auki fer dekkið á flot og missir grip fyrr en önnur dekk. Undir álagi er stýrið ómarkvisst og erfitt að staðsetja bílinn á vegi. Því má hins vegar ekki gleyma að LX2 kemur frá frá gæða framleiðenda og er því er dekkið gott í akstri við krefjandi aðstæður og fyrirsjánlegt áður en dekkið missir grip. Á malbiki er dekkið þæginlegt og hljóðlátt þrátt frir gróft mynstur. Ef þú ert í leit að Continental dekki þá eru SportContact 5 og sérstaklega PremiumContact6 næst öðrum dekkjum í sem voru í prófunum, en PC6 var ekki fáanlegt í réttri stærð þegar prófanir voru framkvæmdar. Kostir: Þægindi og lág veghljóð, losar grip jafnt of fyrirsjánlega. Gallar: Bremsuvegalengd, lélegt grip, ómarkvisst stýri.

Hemlun á blautum vegi

6

Hemlun á blautum vegi

6

Akstureiginleikar á blautum vegi

3

Akstureiginleikar á blautum vegi

6

Grip í beygju á blautum vegi

4

Grip í beygju á blautum vegi

4

Flot

4

Flot

2

Flot í beygju

4

Flot í beygju

2

Hemlun á þurrum vegi

4

Hemlun á þurrum vegi

2

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

6

Aksturseiginleikar á þurrum vegi

4

Eldsneytiseyðsla

6

Eldsneytiseyðsla

6

Veggnýr

3

Veggnýr

4

Núningsmótstaða

3

Núningsmótstaða

4 35


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sumardekkjakönnun 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu