Skip to main content

Sumardekkjakönnun 2019

Page 1


SUMAR DEKKJA KÖNNUN 2019

Sumardekkjakönnun 2019

Gæðamunur dekkja kemur best fram við akstur á blautum vegi. Undir þeim kringumstæðum verða skilin hvað skýrust á milli öruggra hjólbarðaog þeirra sem búa yfir minna öryggi. Þetta kemur fram í nýrri gæða- og öryggiskönnun á sumarhjólbörðum 2019. Könnunni leiðir ennfremur í ljós að dýrari vörumerkin reynast yfirleitt öruggari en ódýrari dekk geta stundum verið góð kaup .

Eins og jafnan áður er dekkjakönnunin unnin af Motor, félagsblaði hins norska systurfélags FÍB; NAF í samvinnu við TestWorld. Dekkjakönnunin nær til 14 tegunda nýrra sumarhjólbarða og fór fram á tilraunaaksturssvæði í suðurFrakklandi. Allir hjólbarðarnir eru af sömu stærð sem er 205/55 R16. Allir eru prófaðir undir sama bílnum sem er af tegundinni VW Golf 1,4 TSI.

Flest dekkin spjara sig vel við ólíkar aðstæður

Mörg gæðadekkjanna koma vel út úr könnunni. Ekkert dekk telst ófullnægjandi og flest þeirra reyndust vel við ólíkar aðstæður. Í flokki dýrari dekkja, gæðadekk, lenti Continental Premium Contact 6 í efsta sæti með 80 stig. Nokian Hakka Blue 2 kemur í humátt á eftir með 79 stig og Dunlop Sport Bluresponse lenti í þriðja sæti með 77 stig. Í flokki ódýrari dekkja komu Fulda Ecocontrol HP best út með 75 stig en þessi dekk eru framleidd í Slóvakíu. Tyrknesku dekkin Falken Ziex Ze 914 Ecorun koma þar skammt á eftir með

73 stig. Þessar tvær tegundir skáru sig sérstaklega úr í flokki ódýrari dekkja.

Mörg dekkin hafa góða eiginleika í akstri

Sjö dekkjanna í sumardekkjakönnuninni tilheyra flokknum dýrari gæðadekk. Ekkert þessara dekkja var óviðunandi og flest hafa góða aksturseiginleika og koma ekki óþægilega á óvart við krefjandi aðstæður. Dunlop og Firestone taka fram úr móðurfyrirtækjum sínum, Goodyear og Bridgestone hvað eiginleika varðar. Dekkin fá ágætis meðaleinkunn en verma hvorki topp- né botnsætið.

Goodyear og Michelin dekkin skiluðu framúrskarandi árangri við sumar aðstæður en voru með lakari eiginleika í öðrum prófunarþáttum. Þau voru hvað best við hemlun á blautum vegi. Bridgestone dekkið þótti hafa gott jafnvægi og góða aksturstilfinningu. Aftur á móti var hemlunarvegalengdin á blautu, bundnu slitlagi hlutfallslega löng. Continental hreppti toppsætið í fjórum prófunarþáttum, eða flest toppsætin þetta árið. Í öðrum flokkum fengu þauoftast nær góða einkum.

Nokian kom vel út í akstri í bleytu

Finnska Nokian dekkið kom best út í akstri í bleytu og við uppflot á rennblautum vegi. Vegna strangra skilyrða í öryggisprófunum hafa verstu eiginleikar dekkjanna mesta þýðingu. Ný dekk geta

verið kostnaðarsöm og margir freistast til að keyra á vetrardekkjunum að sumri til. Staðreyndin er sú að dekk ætluð til aksturs á norðurslóðum á ís og í snjó eru talsvert verri til brúks að sumri til.

Öll dekkin voru prófuð í aðstæðum sem upp geta komið í almennum akstri

Markmiðið með þessari könnun er að bregða hlutlausu ljósi á eiginleika 14 tegunda nýrra sumarhjólbarða. Öll dekkin voru prófuð við aðstæður sem upp geta komið í almennum akstri og þess vandlega gætt að sérhver þraut sem lögð er fyrir sé nákvæmlega eins í hvert skipti til að allur samanburður einstakra tegunda sé eins marktækur og kostur er.

Þegar kaup á sumarhjólbörðum eru skoðuð er ekki sérstök ástæða að rýna í hvaða dekk hafna í efstu sætunum. Miklu frekar að skoða einkunnatöfluna og meta út frá henni hvaða tegund hentar vel þínum þörfum, þínum aðstæðum, og þá ekki síst þínum efnahag.

Öryggið fyrir mestu

Í könnunni kemur í ljós að ekki er mikill munur milli hjólbarðanna í þremur efstu sætunum. Allt eru þetta svokölluð gæðadekk en það eru einnig til góð ódýrari dekk . Mestu skiptir að öryggið en neytendur ættu að forðast dekkin sem hafna neðarlega í könnunni.

Svona eru dekkin prófuð

Hemlun

Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mjög mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna er vægi aksturs og hemlunar í bleytu þyngst.

Við hemlaprófanir í bleytunni var loftstig +10-15 gráður en á þurru malbiki var hitinn +20-25 gráður. Hver hjólbarði er prófaður margsinnis á nokkra daga tímabili til að ná fram ábyggilegustu mynd sem og raunhæfastan samanburð á eiginleikum hjólbarðanna.

Brýnt er og vert að hafa í huga að mikilvægustu eiginleikar sumarhjólbarða eru tengdir bleytunni og eru sem styst hemlunarvegalengd, sérstaklega í bleytu, góð ráðfesta, tryggt veggrip í beygjum og sem minnst hætta á flotun.

Veggrip

Veggrip hjólbarðanna er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri akstursbraut. Aksturinn og mælingarnar eru marg endurteknar og annast nokkrir ökumenn aksturinn í könnunni. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautartímamælinga.

Flotun

Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar veggrip hefur algerlega tapast, er skráður.

Aksturstilfinning

Margir tilraunaökumenn meta hver fyrir sig hvernig hver hjólbarðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og í ýmsum mismunandi akstursaðstæðum, eins og hvað gerist þegar bíllinn skrikar og hvernig gerist .að og hversu erfitt eða létt er að ná fullri stjórn á bílnum. Hafa verður í huga að slíkar aðstæður koma oft upp í akstri í umferðinni. Um er að ræða blindpróf, eða með öðrum orðum þá vita ökumenn ekki hvaða hjólbarðategund er undir bílnum.

Veggnýr

Vegdynurinn er bæði mældur með mælitækjum og metinn af ökumönnum. Ekið er eftir vegi með grófu vegyfirborði. Ökumenn í könnunni vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir bílnum hverju sinni.

Núningsmótstaða

Núningsmótstaða hjólbarðanna er mæld í sérstökum tækjabúnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnsta mótstöðu (rennur lengst). Einkunnin er útreiknuð aukin eldsneytiseyðsla.

Kannaðu verð áður en þú kaupir

Þegar þú hefur fundið þá tegund sumarhjólbarða sem þú telur hæfa sem best, skaltu hringja og kanna verð hjá nokkrum söluaðilum eða á hjólbarðaverkstæðum. Sú könnun gæti hæglega sparað kaupandanum ófáar krónur. Ennfremur er félagsmönnum í FÍB að skoða möguleg afsláttarkjör í formi FÍB-afsláttar sem getur numið 10-15%.

dýr Sumardekk

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 20. vika 2018

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk:

Hemlun í bleytu 12 Hemlun á þurru 10

Akstursgrip í bleytu 10 Akstur á þurru 10

Akstur í bleytu 15 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 4 Veggnýr 4

Svig í bleytu 4 Þægindi 3

80 STIG

2

Nýjasta PC6 Continental dekkið er minna um sig en fyrirrenni þess, sportlegri hönnun og stærri snertiflöt. PC6 skilar bestu gripi allra dekkja sem voru prófuð jafnt á þurrum eða blautum vegi.

Dekkið lætur vel af stjórn og stöðvar bílinn hratt og örugglega sérstaklega á þurrum vegi. Þegar kemur að akstri í vatni stendur dekkið sig einna verst jafnt í beygjum og beinum akstri. Þessi ókostur kostaði dekkið næstum fyrsta sætið í prófunum. Gott grip við hemlun, þægindi og lágvært innsiglaði hins vegar sigurinn.

3

Dunlop Sport Bluresponse

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 33. vika 2018

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili:

Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 9

Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 8 Akstur á þurru 8

Akstur í bleytu 12 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 8 Veggnýr 4

Svig í bleytu 8 Þægindi 4

77

STIG

Dunlop er systur merki Goodyear. Sport BluResponse stóð sig almennt vel í gegnum öll prófin. Þrátt fyrir að taka aldrei topp sætið þá var dekkið ávallt með efstu dekkjum í öllum prófunum. Eini þátturinn sem dekkið náði einungis meðalskori var hemlun á blautum vegi.

Dunlop dekkin stóðu sig betur í beygjum heldur en Goodyear dekkið en viðbragð var samt sem áður ekki jafn gott og bestu dekkin í prófunum sem þýddi að taka þurfti skarpari beygjur en ella. Dekkið fer átakalaust yfir hindranir og er hljóðlátara en Goodyear. Heilt yfir eru þetta góð dekk með engan augljósan veikleika og vermir því þriðja sæti.

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 94 (670 kg)

Framleiðsludags: 25. vika 2018

Framleiðsluland: Finnland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk:

Hemlun í bleytu 12 Hemlun á þurru 6

Akstursgrip í bleytu 8 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 15 Eldsneytis eyðsla 6

Flot á dekkjum 10 Veggnýr 3

Svig í bleytu 10 Þægindi 3

Finnska dekkið stóð sig best á blautum vegi með gott grip þrátt fyrir vatnselg og stutta bremsuvegalengd og gott grip til hliðanna. Dekkið er auðvelt í akstri og fyrirsjáanlegt í akstri. Nokian Hakke Blue 2 skorar ekki vel þegar kemur að akstri á þurru malbiki. Hefur bæði lengri bremsuvegalengd og er í mýkri kantinum þegar kemur að akstri undir álagi eins og í beygjum. Þá mældist það með hæðstu eyðslumælingu af dekkjunum átta í þessu prófi.

3

Firestone Roadhawk

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 3. vika 2018

Framleiðsluland: Ungverjaland

Söluaðili: Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 12 Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 8 Akstur á þurru 10

Akstur í bleytu 12 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 8 Veggnýr 2

Svig í bleytu 6 Þægindi 3

77

STIG

Ameríska merkið Firestone er í eigu Bridgestone í Japan og deila þeir með sér ýmsum einkennum eins og að hafa gott grip til hliða og gott viðbragð í stýringu. Roadhawk dekkið er ekki jafn mjúkt í akstri eins og Bridgestone dekkið. Það er kvikara í akstri á þurru malbiki en í bleytu vill afturendi bílsins missa grip. Þá er eldsneytis eyðsla í hærra lagi miðað við önnur dekk.

Dekkið stendur sig vel í blautum akstri og gott þol áður en það byrjar að fljóta í vatni. Veikleikar eru helst lágtíðni hljóð í akstri eins og með Bridgestone dekkið. Á heildina litið kom Roadhawk skemmtilega á óvart og á því fullt erindi að deila þriðja sæti með Dunlop.

Nokian Hakka Blue 2

72 STIG 71 STIG

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 14. vika 2018

Framleiðsluland: Ítalía

Söluaðili: N1

Verð per. dekk 17.990 krónur

Hemlun í bleytu 15 Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 9 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 10 Veggnýr 2

Svig í bleytu 6 Þægindi 2

Fjórða kynslóð Primacy frá Michelin er kynnt sem endingargóð dekk þar sem hámarks grip er tryggt út allan líftíma dekksins. Primacy 4 stendur sig vel þegar kemur að hemlun á blautum vegi og ryður vel frá sér vatni. Þá fær það ágætis einkunn þegar kemur að bremsuvegalengd á þurru malbiki.

Dekkið stendur sig ekki nægjanlega vel þegar kemur að akstri í beygjum og skortir uppá grip til hliðanna. Það er samt öruggt og þægilegt í akstri þrátt fyrir skort á gripi. Michelin vermir því fimmta sætið.

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 32. vika 2018

Framleiðsluland: Þýskaland

Söluaðili: Klettur

Verð per. dekk 17.900 krónur

Hemlun í bleytu 12 Hemlun á þurru 6

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 9 Eldsneytis eyðsla 10

Flot á dekkjum 8 Veggnýr 2

Svig í bleytu 8 Þægindi 4

EfficentGrip hefur margar styrkleika en ýmsir veikleikar koma þar upp á móti. Styrkurinn felst í lágri eldsneytiseyðslu og fer seint að fljóta í vatns akstri. Þá hefur dekkið stutta bremsuvegalengd í bleytu. Hins vegar koma veikleikar í ljós þegar kemur að akstri við þurrar aðstæður. Slakt grip til hliða og skortur á nákvæmni í stýri. Veikleikar dekksins eru óþarfleg mýkt og mikil undirstýring.

Bremsuvegalengd á þurru malbiki er sú lengsta af öllum dekkjunum sem voru prófuð. Þessi munur milli styrk og veikleika skilaði dekkinu í sjötta sæti.

69 STIG 60 STIG

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 16. vika 2018

Framleiðsluland: Ungverjaland

Söluaðili: Betra Grip

Verð per. dekk 20.903 krónur

Hemlun í bleytu 6 Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 8 Akstur á þurru 8

Akstur í bleytu 12 Eldsneytis eyðsla 10

Flot á dekkjum 6 Veggnýr 2

Svig í bleytu 6 Þægindi 3

Með þessari seinustu kynslóð af Turanza hefur stærsti dekkjaframleiðandi heims kynnt gott akstursdekk sem nýtur sín best í beygjum. T005 svarar vel í beygjum og stendur sig almennt vel jafnt í þurru og blautu. Þrátt fyrir að vera með eina bestu hemlun á þurru malbiki þá verður hún ein sú versta í prófinu þegar vatni er bætt við.

Dekkið er í meðallagi þegar kemur að vatnsfloti og hefur tilhneigingu til að framkalla lágtíðni hljóð á ákveðnum hraða. Þetta er góður valkostur fyrir þá sem hafa gaman að krefjandi og hröðum akstri en á heildina litið nær það ekki hærra en sjöunda sæti.

Hraðaþol: H(210 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 39. vika 2017

Framleiðsluland:

Söluaðili:

Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 9 Hemlun á þurru 2

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 4

Akstur í bleytu 6 Eldsneytis eyðsla 6

Flot á dekkjum 10 Veggnýr 5

Svig í bleytu 8 Þægindi 4

Vetrardekkið er sniðið að blautum vetraraðstæðum. Því skoraði dekkið ágætlega í ákveðnum prófum sem snéru að blautum aðstæðum. Hönnun dekksins gerir það að verkum að það ryður frá sér vatni og fer á síður á flot. Þá er hliðargrip og bremsuvegalengd á blautum vegi ásættanlega.

Þegar kemur að akstri undir álagi þá skortir vetrardekkið þann stöðugleika sem sumardekkin hafa. Á þurru malbiki þá eykst bremsuvegalengdin til muna og verður beinlínis hættulega í þungri sumarumferð.

dýr Sumardekk

Hemlun (metrar)

Akstur á blautum vegi

Meðal bremsuvegalengd sjö prófanna úr 100 km/h í 1mm vatni. Michelin er leiðandi og stöðvar tæpum 1,5 metrum fyrr en næsta dekk.

Grip (sek.)

Meðal tími við hringakstur í 0,8 mm vatni. Continental hefur besta gripið í hliðarskriði en Michelin fær slökustu einkunn.

Akstur (sek.)

Meðal tími þriggja akstursprófana í 0,8 mm vatni. Continental kemur best út en örlar á undirstýringu. Nokian þótti gefa öruggasta aksturinn.

Flot (km/h)

Uppgefinn hraði þegar framdekk fara að snúast 15 hraðar en afturdekk þar sem þau eru farin að fljóta. Vetrardekkin komu best út vegna mynsturs. En Nokian og Michelin eru bestu sumardekkin.

G-kraftur við beygjur í 8mm vatni. Vetrardekkin eru að fá ágætis einkunn en Nokian kom best út af sumardekkjum.

Akstur á þurrum vegi

Hemlun (metrar)

Meðal bremuvegalengd fimm prófana úr 100 km/h. Continental skar sig úr með bestu niðurstöðu. Vetradekkið hafði nær 30% lengri hemlun.

Akstur (sek.)

Meðal tími við hringakstur. Nokian og Goodyear eru í mýkri kantinum undir álagi. Michelin er stöðugra en með slakar grip. Firestone lætur vel af stjórn og akstursánægju. Continental hafði gott grip og stöðugleika sem skilaði því besta tímanum.

Elsneytisnotkun

(l/100 km)

Ekið í hring á stöðugum hraða og léttar beygjur. Bridgestone og Goodyear höfðu minnsta viðnám sem skilaði sér í lægri eyðslu. Vetrardekkið og Nokian ráku síðan lestina.

Veggnýr

70/110 km/h db Mælt í 10 sek. við eyra ökumanns.

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 4. vika 2017

Framleiðsluland: Slóavanía

Söluaðili:

Verð á eitt dekk:

Hemlun í bleytu 6 Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 8

Akstur í bleytu 12 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 8 Veggnýr 5

Svig í bleytu 10 Þægindi 4

75 STIG

Fulda er í eigu Goodyear og stendur sig óvenju vel miðað við dekk í lægri verðflokkum. Bremsuvegalengd í bleytu er eins sú besta í flokknum en samt ekki jafn góð og dýrari dekk. Grip við akstur í bleytu er ásættanlegt jafnvel í krefjandi keyrslu. Dekkið lætur vel að stjórn og heldur stefnu vel þrátt fyrir að ökumaður geti upplifað bílinn þungan í stýri.

Fulda stendur sig vel hvað varða flot og beygjur á blautum vegi. Hemlun á þurrum vegi er mjög góð. Hins vegar er upplifun sú að dekkið bregst seint við stýri. Á heildina litið er Fulda gott dekk, auðvelt og þægilegt í akstri.

3

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 11. vika 2017

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili:

Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 6 Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 9 Eldsneytis eyðsla 10

Flot á dekkjum 6 Veggnýr 3

Svig í bleytu 4 Þægindi 2

60

STIG

2

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 10. vika 2017

Framleiðsluland: Tyrkland

Söluaðili:

Verð á eitt dekk:

Hemlun í bleytu 9 Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 8

Akstur í bleytu 9 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 8 Veggnýr 4

Svig í bleytu 10 Þægindi 3

Faken kemur frá Japan og kemur einna best úr prófunum í sínum flokki. Stendur sig vel í hemlun í bleytu en skortir grip við skarpar beygjur. Dekkið kemur hvað best út í floti þar sem fjórar rásir losa vatnið fljót út til hliðanna. Bremsuvegalengd á þurrum vegi er stutt ásamt því er dekkið stöðugt en skortir viðbragð.

Dekkið hefur lága mótstöðu og bregst vel við ójöfnum í vegi en getur ýtt undir velting til hliða. Þá er dekkið hljóðlátt.

4

Roadstone kemur frá Kóreska dekkjaframleiðandanum Nexen. Hemlun í bleytu er yfir meðallagi í þessum flokk en er undir mælingum á dýrari dekkjum. Það bregst vel við á blautum vegi og missir grip í litlum skrefum en ekki allt í einu. Hins vegar er dekkið þungt í akstri og veitir litla tilfinningu.

Grip á blautum vegi mætti vera betra en hemlun á þurru er mjög góð. Dekkið er gott á þurrum vegi en þegar komið er í bleytu missir það tengsl við veginn og skortir ökumann tilfinningu fyrir akstrinum. Dekkið kemur allra best út þegar kemur að eldsneytiseyðslu.

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 12. vika 2017

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili: Sólning

Verð per. dekk 9.995 krónur

Hemlun í bleytu 6 Hemlun á þurru 6

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 9 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 6 Veggnýr 2

Svig í bleytu 4 Þægindi 2

55 STIG

Grip á blautum vegi er í meðallagi gott og leitast dekkið við að undirstýra bílnum. Dekkið stendur sig vel við að ryðja frá sér vatni en ekki jafn gott þegar kemur að beygjum í bleytu. Hemlun er í meðallagi á þurru malbiki. Dekkið þykir stíft en á heildina litið er það ásættanlegt við krefjandi akstur. 73 STIG

Falken Ziex ZE 914 ECORUN
Roadstone Eurovis SPORT 04
Landsail LS 388
Fulda Ecocontrol HP

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 46. vika 2016

Framleiðsluland: Tævan

Söluaðili:

Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 3

Hemlun á þurru 8

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 6 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 6 Veggnýr 3

Svig í bleytu 4 Þægindi 2

Dekkið kemur næst verst út við hemlun á blautum vegi. Því má nefna að þegar bíll á dýrari dekkjum hafði stöðvast þá var næsti bíll á Maxxis dekkjum enn á 47 km/h. Gripið er í meðallagi í beygjum og þegar beygt er á blautu malbiki getur ökumaður átt erfitt með að stýra bílnum frá undirstýringu.

Dekkið er slakt við hemlun, hafa þarf fyrir beygjum og lítil tilfinning er fyrir akstrinum. Auðvelt er að forðast að dekkið fari á flot í beinni línu en lakar þegar ekið er í gegnum beygjur. Á þurru er hins vegar allt önnur saga, bremsuvegalengd er mjög góð og dekkið stöðugt við akstur.

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 13. vika 2017

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili: -

Verð per. dekk -

Hemlun í bleytu 3 Hemlun á þurru 6

Akstursgrip í bleytu 4 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 3 Eldsneytis eyðsla 8

Flot á dekkjum 4 Veggnýr 2

Svig í bleytu 2 Þægindi 2

STIG

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 19. vika 2017

Framleiðsluland: Kína

Söluaðili:

Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 3 Hemlun á þurru 6

Akstursgrip í bleytu 6 Akstur á þurru 6

Akstur í bleytu 6 Eldsneytis eyðsla 6

Flot á dekkjum 4 Veggnýr 3

Svig í bleytu 2 Þægindi 3

Nordexx er hannað af NDI í Danmörku en framleitt í Kína. Frammistaða við hemlun í bleytu er ein sú versta í prófunum. Það eru nokkrir veikleikar sem koma í ljós við krefjandi akstur þar sem gripið er ekki nægjanlega gott, bíllinn lætur illa að stjórn í svigakstri og veldur undirstýringu.

Dekkið missir fljótt grip í bleytu, jafnt beint og í beygju. Nordexx virkar best við þurrar aðstæður þar sem hemlunarvegalengd er aðeins yfir meðallagi.

Goodride er framleitt í Kína og deilir svipuðu mynstri og samanburðardekkin. Þau eru fremur þung og einu dekkin sem eru með C í einkunn við akstur í bleytu. Bremsuprófun í bleytu er sú versta af öllum dekkjum sem prófuð voru. Þegar Continental dekkið hafði stoppað var Goodride enn á rúmlega 50 km/h. Svipaðar niðurstöður voru fyrir akstur í bleytu jafnt í beinni línu, beygjum og svig akstri.

Dekkið stendur sig umtalsvert betur við þurrar aðstæður en er samt sem áður það slakast í prófunum. Einu jákvæðu niðurstöðurnar voru þegar eldsneytiseyðsla var mæld.

Hraðaþol: V(240 km/h)

Burðarþol: 91 (615 kg)

Framleiðsludags: 34. vika 2017

Framleiðsluland: Frakkland

Söluaðili:

Verð per. dekk

Hemlun í bleytu 15 Hemlun á þurru 10

Akstursgrip í bleytu 10 Akstur á þurru 8

Akstur í bleytu 15 Eldsneytis eyðsla 6

Flot á dekkjum 8 Veggnýr 4

Svig í bleytu 8 Þægindi 4

Grip á blautum vegi er einstaklega gott og gefur sérstaklega stutta bremsuvegalengd. Dekkið skorar best í öllum flokkum á blautum vegi og næst flestum þegar kemur að flotun. Þá stöðvast það fyrst á þurrum vegi ásamt því lætur það vel að stjórn jafnt á þurrum og blautum vegi. 52 STIG 45 STIG 40

88 STIG

Continental er eitt af best dekkjum á markaðnum og var sigurvegari í dekkjakönnunum 2018. Í þessum prófunum var ContiPremiumContact5 notað sem viðmið hvar ódýrari dekk standa gagnvart þeim bestu.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Sumardekkjakönnun 2019 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu