2.tbl. 2016
F É L A G
Í S L E N S K R A
B I F R E I Ð A E I G E N D A
RENAULT TALISMAN
BÍLL ÁRSINS
17 0 2 Á ÍSLANDI
Reynsluakstur
NISSAN NAVARA VOLKSWAGEN TIGUAN RENAULT TALISMAN
ÖRYGGI BARNABÍLSTÓLA
Neytendamál
SPARAKSTURSKEPPNI FÍB OG ATLANTSOLÍU TJÓN EN EKKERT TJÓNAMAT
VANRÆKT VEGAKERFI
UMFELGUN 69% VERÐMUNUR
VETRARDEKKJA KÖNNUNIN 2016/2017
1
2
3
Við fjármögnum flest milli himins og jarðar Flæðilínur, flutningatæki, flugvélar, fjórhjól, ferðaþjónustu, farartæki, ferðavagna og fjölmiðlatæki – og líka fjölmarga aðra hluti sem ekki byrja á f.
Við aðstoðum með ánægju.
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
4
SETJUM VEGINA Í FORGANG
ÚTGEFANDI FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA
Ritstjóri Stefán Ásgrímsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson HÖFUNDAR EFNIS: Haraldur Guðjónsson Thors Róbert Már Runólfsson Runólfur Ólafsson Stefán Ásgrímsson
Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 16.500
FÍB Blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 7.500.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið
FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA
Skúlagata 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Fax: 414-9998 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is
Í samgönguáætlun er gerð grein fyrir stefnu ríkisins og helstu áætlunum í samgöngumálum. Snemma í október í þinglok náðist loks að samþykkja samgönguáætlun fyrir árin 2015–2018. Það lýsir ekki sterkum metnaði að fjögurra ára samgönguáætlun sé loks samþykkt þegar tæplega helmingur tímans sem áætlunin nær yfir er liðinn. Áætlunin bar fram undir samþykkt sterkan keim af því að kjósa átti vorið 2017 en ekki í lok október 2016. Gert var ráð fyrir samdrætti í framkvæmdum 2016 samanborið við 2015 þrátt fyrir óvenju mikinn vöxt í umferð á vegum með auknum túrisma og bættum hag í samfélaginu. Umferðin í nýliðnum september jókst um heil 17 prósent frá september mánuði 2015 á Hringveginum. Ekki hefur mælst meiri aukning í september mánuði síðan þessar mælingar hófust árið 2005. Kosningaskjálfti kom hreyfingu á málin í haust og samstaða náðist um auknar fjárveitingar til vegamála. Fjögurra ára samgönguáætlunina var samþykkt af öllum viðstöddum þingmönnum með áorðnum breytingum. Auknar fjárveitingar til knýjandi verkefna er fagnaðarefni en það þarf að gera enn betur og taka þennan mikilvæga málaflokk út úr pólitísku dægurþrasi nærsamfélagsins. Framkvæmda- og öryggismál umferðarinnar verða að byggjast á faglega unnum áætlunum sérfræðinga óháð kjörtímabilum og kjördæmaríg. Fagaðilar eiga að leiða þá vinnu í samráði við kjörna fulltrúa almennings. Átaks er þörf í viðhaldi og nýframkvæmdum vega vegna mikillar vanrækslu á liðnum árum. Íslenska vegakerfið er byggt upp miðað við allt annað samfélag en við búum við í dag. Samhliða fjölgun ferðamanna eykst akstur. Huga þarf sérstaklega að vegum til og frá vinsælum áfangastöðum ferðamanna. Þetta snýst ekki bara um framkvæmdir heldur ekki síður um viðhald og bætta þjónustu allt árið um kring.
Vegagerðin áætlar að á næstu 10 árum þyrfti að verja um 35 milljörðum króna á ári til að koma vegakerfinu í nútímahorf. Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir aðeins hluta af fjárþörfinni til vegakerfisins. Gera má ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af bílum og umferð fari yfir 70 milljarða króna í ár en innan við 35% af þessum skatttekjum renna til viðhalds og uppbyggingar vega. Forgangsröðun framkvæmda verður að taka mið af umferðaröryggi, þjóðhagslegri arðsemi, atvinnuuppbyggingu og samfélagsþróun. Örugg umferð varðar alla, er stærsta byggðamálið og fáar fjárfestingar skila sér jafn ríkulega til þjóðfélagsins.
Það er hægt að taka undir margar áherslur stjórnvalda varðandi samgöngur og umferð sem settar eru fram í samgönguáætlun. Það er vel að lofa inn í framtíðina enda vandamálið aðkallandi. Vegakerfið er að grotna niður vegna aukins umferðarþunga og uppfyllir víða ekki lágmarks öryggiskröfur. Það þarf þjóðasátt um uppbyggingu innviða. Gott og öruggt vegakerfi er lykillinn að farsælli uppbyggingu samfélagsins. Við verðum að setja samgöngumálin í forgang og FÍB hvetur stjórnmálamenn til dáða í aðdraganda kosninga.
Runólfur Ólafsson
Framkvæmdarstjóri
5
Efnisyfirlit 8
HOLA - nýtt app 29
Tjón en ekkert tjónamat
10 Einskonar Ikea bíll 12
Vetrardekkjakönnun FÍB
20 Umfelgun verðkönnun
8
37
12 ÁBÓTAVANT TJÓNAMÁT
VANRÆKT VEGAKERFI
22 Barnabílstólakönnun 26 F-pallbíllinn vinsælastur 27 Áhugaverðir Lada bílar 28 Vélsmiðjan Þingeyri 30 Sumarferð um Vesstfirði 32
Ný sparneytin bensínvél
33
Auðvelt að stela bílunum
34 Sparaksturskeppni FÍB & AO 36 Bílar í dægurlagatextum 37
Vanrækt vegakerfi
38
Bíll ársins á Íslandi
22
40 Formúla 1 heimsótt á Monza
BÍLSTÓLAKÖNNUN
42 VW Tiguan reynsluekið 44 Nissan Navara reynsluekið 46 Renault Talisman reynsluekið 49 Volvo Amazon sextugur 50 Hjólbarðar á afslætti 51
FÍB verslun Skúlagötu 19
52 Show your card
12
54 Bifreiðaþjónusta
20
VETRARDEKKJAKÖNNUN
VETURINN NÁLGAST
Í vetrardekkjakönnun FÍB blaðsins á bls. 12 er að venju fjallað um vetrardekk sem sérstaklega eru til þess gerð að mæta vetrarfæri á norðurslóðum sem geta verið snævi þaktir vegir og svellaðir, jafnvel vikum og mánuðum saman. Öll dekkin sem fjallað er um í könnuninni eru sérhæfð norðurslóðadekk nema eitt. Það er sérstaklega gert til að duga við miðevrópskar vetraraðstæður þar sem sjaldan snjóar í byggð, hálka myndast sjaldan og stendur aldrei lengi við, heldur getur rignt oft og stundum mjög mikið og vegir verið rennvotir langtímum saman. Þessi könnun leiðir skýrt í ljós mikinn mun milli norðurslóðadekkja og miðevr-
6
ópudekksins umrædda og annarra slíkra. Miðevrópudekkið er mjög gott á auðum vegum og hefur fyrirtaks veggrip í bleytu. Það stendur norðurslóðadekkjunum hins vegar langt að bak í akstri í snjó og á ís. Veðurfar og akstursaðstæður eru mjög mismunandi eftir því hvar á landinu er gripið niður. Bestu norðurslóðadekkin, gjarnan negld, geta verið lífsnauðsynleg þeim sem aka um fjallvegi eins og Holtavörðuheiði, Vatnsskarð og Öxnadalsheiði eða Bara Hellisheiðina eða Víkurskarð, en minni nauðsyn fyrir þá sem mest eru á ferðinni á suðvesturhorni landsins. Þetta er nefnt hér til að minna lesendur könnunarinnar á það að þeir eiga val um ýmsa kosti. Skynsamlegt
69% VERÐMUNUR Á UMFELGUN
er því að rýna vel í könnunina, ekki síst mælda frammistöðu þeirra í einstökum tilgreindum aðstæðum og láta síðan veðurfar og algengustu vetraraðstæður þar sem þeir eru sjálfir mest á ferðinni ráða vali sínu. Einkunnir vetrardekkjanna eru nefnilega alls ekki hinn eini algildi mælikvarði á gæði vetrarhjólbarðanna.
Stefán Ásgrímsson ritstjóri
NÝR BALENO! ÞÚ VERÐUR AÐ PRÓFA HANN
KYNNUM NÝJAN TÍMAMÓTA BALENO
SUZUKI
SAMRUNI RÝMIS OG HÖNNUNAR
NÝR VALKOSTUR!
SUZUKI BALENO
MILD HYBRID
BALENO setur ný viðmið í nýtingu rýmis. Hann hefur mesta innra-og farangursrými í sínum flokki og er um leið sérlega vel hannaður og glæsilegur … samruni hönnunar og rýmis.
Við kynnum nú í fyrsta sinn Suzuki Baleno með MILD HYBRID vél, ásamt tveimur sparneytnum bensínvélum, 1,0 Boosterjet og 1250 Dualjet. Meðal eyðsla frá 4,0 l/100km.
Fáðu nánari upplýsingar á suzuki.is
Suzuki bílar hf. I Skeifunni 17 I Sími 568 5100
7
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL
TJÓN EN EKKERT TJÓNAMAT TÓKST AÐ LENDA MÁLINU
A
- Félagsmanni bætt tjónið - Furðuleg vinnubrögð við tjónamat
fskipti FÍB af ágreiningsmáli milli félagsmanns í FÍB og tryggingafélags urðu til að málið hlaut farsæla lausn sem forðaði félagsmanninum og fjölskyldu hans frá umtalsverðu fjárhagstjóni. Málavextir eru þeir að um mitt sl. sumar keypti fjölskyldan bíl af gerðinni Renault Clio árgerð 2013 gegn 1.750 þ. kr. staðgreiðslu. Fáeinum vikum eftir kaupin varð umferðaróhapp þar sem bíllinn skemmdist verulega en sem betur fer urðu ekki alvarleg meiðsli á fólki. Eftir slysið var bíllinn tjónaskoðaður hjá Bílauppboði ehf og var hann þar talinn svo mikið skemmdur að viðgerð svaraði ekki kostnaði þar sem hún færi jafnvel fram úr gangverði óskemmdra bíla af þessari tegund og árgerð. Tryggingafélagið bauðst því til þess að leysa bílflakið til sín og staðgreiða fjölskyldunni verðmæti bílsins, en þá kom babb í bátinn: Það verð sem tryggingafélagið bauð var 1.600 þ.kr. en ekki 1.750 þ.kr. eins og bíllinn hafði kostað fáum vikum áður. Fjölskyldan vildi ekki sættast á það. En tryggingafélagið stóð fast á sínu á þeirri forsendu að í ljós hefði komið í skoðun tjónamatsmanns Bílauppboðs ehf. að bíllinn hefði áður lent í tjóni og skemmst verulega og að margt benti til þess að skekkja væri í grindarendum. Í tjónamatinu kom einnig fram að viðgerð bílsins virtist hafa verið ófullnægjandi. Fulltrúi tryggingafélagsins sagði 1.600 þ.kr. 8
samkomulagsgreiðslu fyrir bílinn sanngjarna þar sem þetta væri tjónabíll sem hefði verið í eigu tryggingfélags (ekki þó sama tryggingafélags og það sem nú átti tjónið). Félagsmaðurinn var upplýstur við kaup hjá bílasölu að Renault Clio bíllinn hefði verið í eigu tryggingafélags en að léttvægt tjón hefði verið fullkomlega viðgert á viðurkenndu verkstæði. Bíllinn var þá keyptur í góðri trú enda var enga tjónamerkingu að finna í ferilskrá bílsins.
Félagsmaðurinn var ekki sáttur við tilboð tryggingafélagsins né þær upplýsingar sem hann hafði fengið við kaupin á bílnum. Hann leitaði því liðsinnis FÍB sem rannsakaði feril Clio bílsins. Í ljós kom að hann hafði skemmst verulega fyrr á árinu í árekstri en ekki verið merktur sem tjónabíll af tryggingafélaginu sem leysti bílinn þá til sín og seldi á uppboði í apríl sl. þrátt fyrir að tryggingafélagið réttlætti útgreiðslutilboð sitt nú með því að vísa til þess að viðgerð eftir tjón (hjá öðru tryggingafélagi) virtist ófullnægjandi
og bíllinn hugsanlega enn skakkur. En það sem er sérstaklega athyglisvert er að bíllinn var eftir bæði þessi tjón, það fyrra og hið síðara, tjónaskoðaður hjá nákvæmlega sama aðila; Bílauppboði ehf, sem er verktaki á vegum tryggingafélaga við sölu bíla á bílauppboðum og við tjónamat. Eftir fyrri tjónaskoðunina var bíllinn settur á söluuppboð ó-tjónamerktur enda þýðir tjónamerking það að endursöluverð bílanna er umtalsvert lægra og bankar og lánastofnanir forðast að taka veð fyrir bílalánum í merktum tjónabílum. Fulltrúi Bílauppboðs ehf tjáði sáttamanni FÍB að þeir tækju ekki ákvarðanir um tjónamerkingar. Það gerðu tryggingafélögin. Eftir sem áður hvílir sú faglega ábyrgð á Bílauppboði ehf að hættulegir tjónabílar fari ekki ómerktir á uppboð fyrirtækisins. Ljóst er að það verður að auka eftirlit og fagmennsku við tjónaskráningar hér á landi. Ekkert bólar enn á endurskoðun regluverks um meðferð tjónabíla sem er búið að vera til skoðunar og hefur verið fast í nefnd í mörg misseri hjá Samgöngustofu. Eftir að fulltrúar FÍB höfðu haft samband við forsvarsmenn tryggingafélagsins, Bílauppboðs ehf og bílasölunnar og bent þeim á hvernig málið væri vaxið, eins og hér er greint frá, varð niðurstaðan sú að sátt náðist. Hún er sú að félagsmaðurinn fær 1.750 þ. kr. fyrir bílinn.
Fáðu 20% afslátt af NOKIAN dekkjum og styrktu Bleiku slaufuna um leið Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum og hluti söluágóða rennur til Krabbameinsfélagsins ein öruggustu dekk sem völ er á ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
SENDUM UM ALLT LAND
Flutningur með Flytjanda 500 kr. hvert dekk
Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is Bíldshöfða 5a, Reykjavík Jafnaseli 6, Reykjavík Dalshrauni 5, Hafnarfirði (Knarrarvogi 2, Reykjavík Ath. ekki dekkjaþjónusta)
Opið: Virka daga kl. 8-17 Laugardaga: sjá MAX1.is
Aðalnúmer:
515 7190 9
BÍLAPRÓFUN FÍB BÍLTÆKNI
Ox1 Gordon Murray th. og Sir Torquil Normann fyrir framan þrjár frumgerðir Ox bílsins eða Uxans sem nú stendur til að framleiða og senda kaupendum ásamt samsetningarverkfærum til kaupenda. Ætlunin er að pakka bílunum niður í flatar pakkningar eins og hverri annarri IKEA-eldhúsinnréttingu.
EINSKONAR IKEA-BÍLL? -SENDUR ÓSAMSETTUR TIL VIÐTAKANDA
E
f IKEA hefði farið út í það að framleiða pallbíl mætti ætla að kaupendur fengju hann heim til sín innpakkaðan í flötum pakkningum eins og hvern annan skáp eða eldhúsinnréttingu sem kaupandinn síðan skrúfaði saman. Einmitt slíkur bíll er nú að verða að veruleika og Formúlu- og ofurbílahönnuðurinn Gordon Murray er hugmyndasmiður bílsins. Gordon Murray sem að uppruna er frá S. Afríku hannaði áður Formúlu 1 bíla fyrir McLaren sem voru afar sigursælir um árabil. Hann hannaði einnig ofursportbílinn McLaren F1 sem ennþá telst með því merkara sem gert hefur verið í heimi bila. Undanfarin mörg ár hefur Murray rekið eigin hönnunarstofu í London. Hann hefur síðustu árin leitast við að færa hátækni Formúlu- og ofursportbíla til almennings og í því skyni hefur hann hannað lítinn borgarbíl með þetta að leiðarljósi, en ekki bara bílinn einan, heldur alla tilurð bílsins, framleiðslu hans flutninga til kaupenda, samsetningu, líftíma og endalok. Mesta áherslan í þessu er á mestu endurnýtingu, minnsta orkunotkun og grynnst ,,kolefnisfótspor.” 10
Í þessum anda hefur hann nú hannað lítinn frambyggðan vörubíl sem fyrst og fremst er hugsaður fyrir þróunarsvæði þar sem vegir eru torfærir og verkstæðisþjónusta er ekki á hverju strái. Bíllinn er þannig eins einfaldur og verða má og honum verður komið í hendur kaupenda í flötum IKEApakkningum ásamt áhöldum til að setja hann saman. Það eiga tveir menn að geta gert heimavið á um. 12 klst. Að stærð verður bíllinn, sem hlotið hefur nafnið Ox, eða uxinn 250 x 207 x 230 sm (lengd/breidd/hæð). Vélin er 2,0 l Ford dísilvél sem nánast alls staðar er fáanleg og drífur hún framhjólin. Bíllinn er frambyggður og í stýrishúsinu situr ökumaðurinn fyrir miðju en tveir farþegar honum til sinnar hvorrar handar. Tjald er yfir pallinum og þar má flytja farangur eða þá koma fyrir sætum fyrir allt að tíu manns, eða bara viðlegubúnaði og nota bílinn sem húsbíl. Burðarþol hans er verulegt eða rúm tvö tonn. Eigin þyngd bílsins er um 1500 kíló. Burðarvirki hans er einföld stigagrind úr stáli og ofan á henni er yfirbyggingin og pallurinn – hvorttveggja smíðað úr léttum vatnsheldum krossviði sem nefnist Wisa-Trans.
Bíllinn Ox er til orðinn að frumkvæði Bretans Sir Torquil Normann sem mun vera þekktur mannvinur sem ber hag fátæks fólks í þróunarlöndum fyrir brjósti. En nú er semsé bíllinn tilbúinn til framleiðslu. Búið að þrautprófa frumgerðir hans og Sir Normann vinnur nú við að afla fjár til að geta hafið framleiðsluna.
Stýrið er í miðju en farþegasæti beggja vegna ökumanns. Framrúðan er saman sett út þremur flötum lagskiptum öryggisglerrúðum sem hægt er að nálgast og skipta út hvar sem er. Öll yfirbygging úr finnskum Wisa-Trans krossviði.
RENAULT SIGURVEGARAR Nýr Renault Talisman var kjörinn Bíll ársins 2017 af Bandalagi íslenskra bílablaðamanna (BÍBB). 36 bílar kepptu til úrslita en aksturseiginleikar, notagildi, verð og búnaður tryggði Renault Talisman sigurinn með nokkrum yfirburðum.
www.billarsins.is
ENNEMM / SÍA / NM77537
RENAULT TALISMAN ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ 3,7 L/100 KM* - DÍSIL VERÐ FRÁ: 4.190.000 KR.
RENAULT CLIO ÍSLANDSMEISTARI Í SPARAKSTRI 2016 Renault Clio sigraði í sparaksturskeppni FÍB 2016. Renault Clio 1,5 dísil var ekið 380 km leið frá Reykjavík til Akureyrar á löglegum hraða fyrir aðeins 2.740 kr. (4,02 l/100 km).
* Eldsneytisnotkun miðast við uppgefnar tölur frá framleiðanda í blönduðum akstri.
RENAULT CLIO ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ 3,4 L←100KM* - DÍSIL VERÐ FRÁ 2.250.000 KR. - BENSÍN
NÝR RENAULT MEGANE Í ÖÐRU SÆTI Í SÍNUM FLOKKI Renault Megane hefur aldrei verið glæsilegri en í þessari nýju útgáfu verðlaunahönnuðarins Laurens van den Acher. Nýr Megane er ekki einungis glæsilegur útlits heldur er hann hlaðinn tækninýjungum og staðalbúnaði sem setur ný viðmið í þessum stærðarflokki bíla.
RENAULT MEGANE ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ 3,7 L←100KM* - DÍSIL VERÐ FRÁ 3.290.000 KR.
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is
11
Bestu negldu og ónegldu vetrarhjólbarðarnir 2016/17:
Hið mikilvæga vetrargrip!
E
ins og svo oft áður eru það gamalkunnu gæðategundirnar (Premium) sem standa sig hvað best í þessari árlegu prófun á vetrardekkjum sem hæfa eiga vel vetrarfærinu á Norðurslóðum. En ódýrar tegundir ættaðar frá Asíu og víðar hafa sótt í sig veðrið undanfarin ár og sumar þeirra orðnar prýðilegar. Í ár er því úrvalið betra en oft áður og hægt að finna fleiri ágætis vetrarhjólbarða meðal þeirra ódýrustu, sem auðvitað er gleðilegt. En það eru fleiri þættir sem stýra verðmyndun hjólbarða en gæðin ein. Samkeppni er einn sá mikilvægasti. Neytendur geta sparað sér ansi marga þúsundkallana bara með því einu að hringja á nokkur hjólbarðaverkstæði og spyrja um verð á tilteknum tegundum og gerðum vetrarhjólbarða og ennfremur að nýta sér umsamda afslætti sem FÍB hefur samið um við stóran hluta hjólbarðasala á Íslandi fyrir hönd félagsmanna sinna. Loks hefur hjólbarðasala til neytenda í Evrópu verið að færast sífellt meir inn á Netið og svo er einnig hér. Á þessu hausti bjóða nokkrar Netverslanir íslenskum neytendum upp á hjólbarða. A.m.k. ein þeirra er hluti af mjög
12
öflugri þýskri netverslanakeðju sem býður mikið úrval hjólbarðategunda og -gerða. En til að gæta hagsmuna sinna sem best viljum við hvetja félagsmenn FÍB og alla bifreiðaeigendur að láta ekki hjólbarðakaup sín ráðast af auglýsingaskrumi heldur kynna sér vel þessa könnun og aðrar
svipaðar hlutlausar og óháðar hjólbarðakannanir og leita síðan eftir þeim hjólbörðum sem best hæfa eigin akstursaðstæðum og bifreiðanotkun og finna hvar verðið er hagstæðast. Með fáeinum símtölum og einfaldri leit á Netinu eru mörg dæmi um 25og jafnvel 50 þús. kr. mun á hæsta og lægsta verði á dekkjaganginum undir heimilisbílinn á einni og sömu tegund
og gerð vetrarhjólbarða. Öryggi á ís og snjó Í þessari könnun er samanlagt vægi mældrar frammistöðu dekkjanna á ís og snjó 65 prósent heildareinkunnarinnar. Ástæðan er einfaldlega sú að snævi þaktir og ísilagir vegir eru varasömustu aksturstæðurnar að vetri víðast hvar á Íslandi. Þeir vetrarhjólbarðar sem mæta þessum aðstæðum best eru Continental og Nokian af negldu dekkjunum og Continental af þeim ónegldu. En sem betur fer liggja ekki svell og snjór allan liðlangan veturinn á öllum íslenskum vegum. Þær aðstæður eru t.d. alls ekki ríkjandi vetrarfæri á suðvesturhorni landsins þar sem umferðin er mest og hálkuvarnirnar öflugastar. Þar má hins vegar oft vænta langra votviðrisog bleytukafla og þannig geta því hjólbarðar sem bestir eru í akstri í bleytu best hentað þeim sem þar aka að mestu leyti. Einkunnagjöf dekkjanna í þessari könnun er þannig alls ekki algild heldur er könnunin meira eins og verkfæri hjólbarðakaupenda. Með því að skoða
Nagladekkin 1. 8,6 Continental IceContact 2 2. 8,6 Nokian Hakkapeliitta 8 3. 8,4 Bridgestone Noranza 001 4. 8,3 Pirelli Ice Zero 5. 8,2 Hankook Winter I*Pike RS+ 6. 8,1 Goodyear Ultragrip Ice Arctic 7. 7,7 Gislaved Nord Frost 200 8. 7,7 Michelin X-Ice North 3 9. 7,4 Toyo Observe G3-Ice 10. 7,0 Kumho WinterCraft Ice Wi31
Ónegldu dekkin
töflurnar yfir frammistöðu barðanna í einstökum þáttum getur fólk metið hvaða hjólbarðategundir henta því sjálfu og eigin vetraraðstæðum best. Og það eru alls ekkert endilega þau sem hæstu heildareinkunnirnar hljóta. Negld öruggust á ís Eitt er það þó sem þessi vetrardekkjakönnunin leiðir enn og aftur skýrt í ljós: Þegar ísing og svell liggja á vegum bera negldu dekkin af þeim ónegldu, sérstaklega í hemlun. Þegar tilraunabílnum var nauðhemlað (ABS-hemlun) á 50 km hraða á svelli, stöðvaðist hann á 39,7 metrum á negldu Nokian dekkjunum. Á óneglda Michelin vetrardekkinu sem var best þeirra ónegldu að þessu leyti, stöðvaðist bíllinn 55,7 metrum. Í snjó hinsvegar jafnast þessi munur milli negldra og ónegldra dekkja að mestu leyti út. Neglda Hankook dekkið reyndist þannig hemla best í snjó. Á 80 km hraða þurfti það 49,5 metra til að stöðvast. Continental, það besta ónegldu dekkjanna, þurfti 52,9 metra til að stöðvast. Ónegld best á þurrum vegi Á þurrum og auðum vegi eru langflest ónegldu dekkin betri en þau negldu. Eins og vænta má eru þau öll með tölu hljóðlátari í akstri en
naglaekkin. Mörg ónegldu dekkin fá einkunnina 10 fyrir að vera lágvær. Til samanburðar þá fær hljóðlátasta nagladekkið einkunnina 7. Þetta dæmi sýnir muninn skýrt. Mið-evrópsk vetrardekk Eftir því sem meir og meir hlýnar á jörðinni fjölgar þeim sem telja það nægja að aka bara á svokölluðum heilsárdekkjum eða í besta falli að skella Mið-Evrópu-vetrardekkjum undir bílinn. Slík dekk eru ónegld og hugsuð og framleidd fyrir þau svæði þar sem ís og snjó festir sjaldan á jörð. Til að sýna hvernig gott slíkt dekk dugar í vetrarfæri norðurslóða samanborið við dekk sem beinlínis eru framleidd til þess, þá var mið-evrópska vetrardekkið frá Continental tekið með í þessu prófi sem viðmiðunardekk. Niðurstaðan er sú að ekki sé almennt rétt að mæla með því þar sem ís og snjór getur verið viðvarandi langtímum saman að vetrinum. Af stóru frammistöðutöflunni má lesa að hemlunarvegalengd þess á ís getur orðið yfir 20 metrum lengri en hjá norðurslóða-vetrardekki Michelin. Á blautum vegum hins vegar er annað uppi á teningnum. Þar hemlar það betur en norðurslóðadekkin. Undanþága fyrir fleiri nagla Greinilegt að því fleiri sem naglarnir eru, þeim mun betra verður veggripið
1. 7,6 Continental ContiViking Contact 6 2. 7,5 Nokian Hakkapeliitta R2 3. 7,4 Goodyear Ultra Grip Ice 2 4. 7,4 Michelin X-Ice XI 3 5. 7,0 Bridgestone Blizzak WS80 6. 6,9 Sava Eskimo Ice 7. 6,8 Hankook Winter i*cept IZ2 8. 6,7 Pirelli Ice Zero FR 9. 6,5 Landsail Winter Lander 10. 6,5 Yokohama Ice Guard ig50 11. 6,3 Nankang Ice Activa Ice-1 á ís. Fyrir tveimur árum kom Nokian fyrst fram með dekk með 190 léttnöglum. Það eru næstum helmingi fleiri naglar en Evrópureglugerð um fjölda nagla í dekki leyfir. Nokian fékk sérstaka tveggja ára undanþágu frá reglugerðinni með því skilyrði að Nokian og eigin rannsóknir vegyfirvalda gætu sýnt fram á að með svona mörgum léttnöglunum yrði hvorki meira vegslit né meiri svifryksmengun. Fleiri framleiðendur fóru síðan að dæmi Nokian og fjölguðu nöglunum en nú liggja fyrir rannsóknir vegyfirvalda sem sýna að mörgu naglarnir valda því að magn örsmárra agna í svifryki eykst. Það er því alls óvíst hvort undanþágan sem heimilar 130-190 nagla í stað 96 í hverju dekki verði enn í gildi næsta vetur. En þeir sem hafa keypt eða kaupa nú fjölnagladekk munu mega nota þau meðan þau enn uppfylla lög og reglur um mynsturdýpt. 13
NEGLDIR VETRARHJÓLBARÐAR
205/55 R16
8,6
8,6
8,4
8,3
8,2
Continental IceContact 2
Nokian Hakkapeliitta 8
Bridgestone Noranza 001
Pirelli Ice Zero
Mjög góðir og jafnir eiginleikar í öllu vetrarfæri skilar Continental í efsta sætið. Hemlunarvegalengdin á ís er eilítið lengri en hjá Nokian, en reynsluökumennirnir gefa því aukastig fyrir trausta aksturseiginleika. Í snjó er IceContact2 sömuleiðis í hæsta gæðaflokki og slær nokian við í hemlun í bleytu. Hefur enga sérstaka veikleika að því frátöldu að nokkuð heyrist í nöglunum 190.
Eiginleikar á ís eru mjög Bridgestone var fyrrum meðal bestu vetrarhjólbarða jafngóðir og ekkert í akstrinum kemur þar en er nú aftur sem óðast óþægilega á óvart. Hemlun að endurheimta sæti sitt í snjó er aðeins síðri en hjá meðal þeirra bestu. Þessi þeim bestu en hröðun og nýja ,,árgerð” er að sjá beygjugrip er engu að síður afar lík nagladekkinu frá með ágætum. Pirelli er eitt Nokian þannig að kannski af bestu nagladekkjunum þarf engan að undra að í hemlun á votu malbiki það spjari sig vel. Það er og hentar því ágætlega kannski ekki skrítið því að þeim sem búa oft við dekkið er framleitt í sömu þær akstursaðstæður. verksmiðjunni í Finnlandi og framleiðir Nokian. Úrvals Hljóðlátasta nagladekkið. vetrardekk á ís en hemlun í Fjöldi nagla:130 snjó er lítillega síðri en hjá Hraðaþol:T (190 km/t) þeim bestu þar. Háværasta Burðarþolskóði:94 dekkið. Snúningsstefna:Já Fjöldi nagla: 190 Hraðaþol:T Innhliðhlið:Nei (190 km/t)Burðarþolskóði: Fjöldi nagla:190 Framleiðsludags: 94 Hraðaþol:T (190 km/t) Vika 47, 2015 Snúningsstefna:Já Burðarþolskóði:94 Framleiðsluland: Rússland Innhliðúthlið:Nei Snúningsstefna:Já Umboðsaðili: Bílabúð Benna Framleiðsludags: Innhliðúthlið:Nei Verð per/stk: 33.990 Vika 6,6 2016 Framleiðsludags: Framleiðsluland:Finnland Vika 6 2016 Umboðsaðili: Max1 Framleiðsluland:Finnland
Hankook Winter I*Pike RS+ Hið kóreska Hankook kom vel út í prófun síðasta árs og svo er einnig nú. Það er mjög jafngott á ís og það er best í hemlun og hröðun í snjó. Furir akstur á hlykkjóttri akstursbraut gefa reynsluökumennirnir Hankook bestu ummæli fyrir öryggi í akstri við flestar aðstæður. Hemlun á þurru malbiki er hins vegar sú sísta. Það dregur heildareinkunnina niður.
Fjöldi nagla:190 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Nei Innhlið/ úthlið:Já Framleiðsludags: Vika 43, 2015 Framleiðsluland:Þýskaland
Umboðsaðili: Sólning Verð per/stk: 33.990
Nokian deilir að þessu sinni efsta sætinu með Continental. Hakkapeliita 8 hlýtur topeinkunnir í öllum akstri á ís með stutta hemlunarvegalengd og afbragðs beygjugrip. Enginn efi er um að 190 naglar í hverju dekki eiga þar nokkurn hlut að máli. Í snjó er hemlunin lítilsháttar síðri en hjá þeim sem best eru í því, en þó viðunandi og vel það. Svipað má segja um hemlun í bleytu. En svipað og Continental þá er þetta hávært dekk.
Verð per/stk: 31.880
Fjöldi nagla:170Hraðaþol:T (190 km/t)Burðarþolskóði:9 4Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðslud:Vika 6, 2016 Framleiðsluland:Kórea
Umboðsaðili: Sólning Verð per/stk: 23.480
Umboðsaðili: Betra Grip Verð per/stk: 33.130
Negld - aðaltafla Ís
Hemlun Hröðun Akstur Aksturseiginleikar
Snjór
Hemluin Hröðun Akstur Aksturseiginleikar
Blautt malbik
Hemlun Akstur Aksturseiginleikar
Þurrt malbik
Hemlun Aksturseiginleikar
Hagkvæmni - þægindi
Veggnýr Núningsmótstaða
Samtals
14
Vægi % Bridgestone ContinentalGislaved Goodyear Hankook Kumho Michelin Nokian Pirelli Toyo 45 15 10 9 7 9 9 8 8 10 9 8 10 10 10 8 8 9 7 8 10 10 8 10 10 10 9 9 9 8 9 9 9 9 10 9 9 8 9 9 7 8 10 8 7 20 5 8 9 9 10 10 8 8 9 9 8 5 8 9 8 10 10 6 7 9 9 6 5 8 10 7 8 9 6 7 9 8 7 5 9 10 8 9 10 7 9 10 9 7 15 5 6 8 7 6 7 7 7 7 8 7 5 6 7 7 6 6 6 7 7 8 6 5 8 9 8 8 8 8 8 8 8 7 10 5 6 6 6 5 5 7 7 7 6 7 5 7 7 8 6 5 5 7 6 7 7 10 5 5 5 7 6 5 6 6 5 7 6 5 9 7 7 8 8 6 7 7 6 7 100 8,4 8,6 7,7 8,1 8,2 7 7,7 8,6 8,3 7,4
8,1
7,7
7,7
7,4
7,0
Goodyear Ultragrip Ice Arctic Goodyear er lítillega síðra á ís en þau sem þar eru best. Eiginleikar þess eru hins vegar mjög jafn góðir og aksturstilfinningin er þar með traust. Í snjó er það mjög gott og grípur vel í væði hemlun og hröðun. Eini veikleikinn er sá að hemlunarvegalengd á blautu malbiki er full löng. Á þurru malbiki er hemlunarvegalengdin sú mesta ásamt Hankook.
Gislaved Nord Frost 200
Michelin X-Ice North 3
Toyo Observe G3-Ice
Gislaved er undirmerki Continental en á lægra verði. Naglarnir í því eru fleiri en voru í fyrra en þrátt fyrir það er það meðal þeirra sístu á ís. Mun betur gengur því í snjó, bæði í hemlun og brautarakstri. Það er stöðugt og rásfast með gott beygjugrip. Þá er það hljóðlátasta nagladekkið ásamt Pirelli.
Michelin er heldur síðra á ís heldur en þau nagladekk sem þar standa sig best. Líklega er ástæðan sú að í því eru einungis 96 naglar. Það stenst heldur ekki þeim bestu snúning í snjónum en eiginleikar þess eru mjög jafngóðir í heild þannig að ekkert kemur á óvart. Eitt nagladekkið á blautu og þurru malbiki. Þar við bætist að það er óvenjulega slitsterkt og endingargott
Enda þótt Toyo með einna lengstu hemlunarvegalengd negldu dekkjanna eru eiginleikar þess á ís að öðru leyti viðunandi. Í snjó er það hins vegar eitt þeirra slöppustu hvort heldur eiga í hlut negldu eða ónegldu dekkin. Einna verst er það hversu lítið þarf til að það tapi veggripi í beygjum. Það gefur ökumönnum óöryggistilfinningu. Á þurru malbiki er Toyo hins vegar best nagladekkjanna.
Fjöldi nagla:96 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 31, 2015 Framleiðsluland:Rússland
Fjöldi nagla:97 Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:91 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags. Vika 5, 2016 Framleiðsluland:Malaysía
Kumho WinterCraft Ice Wi31 Kumho hefur áður birst í sumarhjólbarðakönnunum okkar með ágætis árangri en þetta er fyrsta neglda vetrardekkið vetrardekkjakönnunum okkar og ekki verður sagt að það slái í gegn. Í því eru 150 naglar sem stuðla að því að hemlun á ís er viðunandi. Dekkið er einnig nothæft í snjó. Hemlun þar er þokkaleg en hröðun afleit. Það skrikar fljótt í beygjum í snjó sem gefur ökumanni ótrygga tilfinningu.
Fjöldi nagla:130 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 50, 2015 Framleiðsluland:Pólland
Fjöldi nagla:130 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 44, 2015 Framleiðsluland:Þýskaland
Umboðsaðili: Klettur Verð per/stk: 29.500
Svona eru dekkin prófuð
Þ
essi prófun nær til vetrarhjólbarða sem sérstaklega eru ætlaðir til notkunar á norðurslóðum. Hún er gerð af finnska fyrirtækinu Test World á tilraunasvæði þess nyrst í Finnlandi fyrir NAF, systurfélag FÍB í Noregi, Aftonbladet og Auto Motor & Sport í Svíþjóð, Tekniikan Mailma í Finnlandi og Auto Revue í Rússlandi. Allir dekkjagangarnir eru keyrðir undir sama bíl (Ford Focus) gegn um fjölmargar þolraunir en af nokkrum ökumönnum. Þolraunirnar eru settar upp á reynsluakstursbrautum bæði innanhúss og utan. Allir dekkjagangarnir eru keyptir í venjulegum verslunum án aðkomu eða afskipta framleiðendanna. Það er gert til að tryggja það að framleiðendur geti ekki sérframleitt dekk fyrir prófið. Ef einhver hjólbarðagerð er svo ný að hún er ekki komin í allar hjólbarðaverslanir getur það gerst að gangurinn sé fenginn beint frá framleiðanda. En jafnskjótt og tegundin er orðin fáanleg í almennum verslunum er keyptur gangur og hann prófaður sérstaklega til samanburðar við dekkjaganginn frá framleiðandanum. Hemlun Hemlunarvegalengdir eru mældar í snjó, á ís og á blautu og þurru malbiki. Prófað er við mismunandi hitastig og niðurstöðurnar
Umboðsaðili: N1 Verð per/stk: 32.990
Umboðsaðili: Bílabúð Benna
Verð per/stk: 31.490
sem hér birtast eru meðaltal 15-20 prófana sem gerðar eru á tveimur til þremur dögum. Á ísnum er hraðinn þegar hemlun hefst 50 km/klst. Á auðum vegi og í snjó er hraðinn þegar hemlun hefst 80 km/ klst. Hemlunarprófanirnar á ís og snjó eru gerðar bæði utan- og innanhúss þar sem hægt er að stilla hita- og rakastig og forðast áhrif veðurs og vinda. Hröðun Grip dekkjanna í snjó og ís er metið með því að auka hraðann úr tilteknum hraða upp í annan meiri hraða. Tíminn sem tekur bílinn að ná efri hraðamörkunum segir til um veggripið. Á ís er hraðinn aukinn úr 5 km/klst í 20 km/klst. Í snjó er hann aukinn úr 5 í 35 km/klst. Eins og í hemlaprófunum eru hröðunarprófin marg endurtekin við mismunandi hitastig, bæði utan- og innanhúss. Aksturseiginleikar Geta hjólbarðanna er prófuð í akstri á brautum sem ýmist eru auðar og votar eða þaktar ís eða snjó. Frammistaðan er metin með því að mæla brautartíma. Akstursmátinn er margþættur; það er tekið af stað, hemlað, beygjur teknar á hæsta mögulega hraða o.s.frv. Margir ökumenn aka bílnum og lokaeinkunnin er meðaltal einkunna hvers og eins þeirra.
Fjöldi nagla:150 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 7, 2016 Framleiðsluland:Kórea
Umboðsaðili: N1 Verð per/stk: 21.539
Aksturstilfinning Til viðbótar mati á aksturseiginleikunum gefur sérhver ökumaður umsögn um frammistöðu hverrar dekkjategundar og á því sem gott er og hvað er miður gott. Mikilvægt er að fram komi hvernig dekkið bregst við í ,,neyðartilvikum” sem upp geta komið í venjulegri umferð og hversu auðvelt eða erfitt er að ná valdi aftur yfir bílnum. Ökumennirnir vita aldrei hvaða dekkjategund er undir bílnum hverju sinni. Veggnýr Veggnýr er mældur en auk þess gefa bæði ökumennirnir og farþegar í aftursæti persónulegt mat sitt á honum. Prófið fer fram á vegi með grófu vegyfirborði. Lokaeinkunnin er meðaltal mats mannanna og mælinganiðurstaðna. Núningsmótstaða Hún er mæld með því að bíllinn er settur í frígír á 80 km/klst og látinn ,,fríhjóla” á láréttum vegi niður í 40 km/klst. Prófið fer fram þar sem truflunar frá vindi gætir ekki. Prófað er við tvenns konar hitastig. Niðurstaðan er umreiknuð til vaxandi eldsneytiseyðslu og er þá miðað við það dekk sem tapaði minnstum hraða í rennslinu.
15
ÓNEGLDIR VETRARHJÓLBARÐAR
205/55 R16
7,6
7,5
7,4
7,4
7,0
Continental ContiVikingContact 6 Continental er í ár besta óneglda vetrardekkið. Grípur vel á ís og tilraunaökumennirnir róma það fyrir góða og örugga aksturseiginleika og slær raunar mörgum negldu dekkjunum við í þeim efnum. Hefur bæði góða hröðun og hemlun í snjó. Á auðum vegum, bæði þurrum og blautum er það lítilsháttar síðra en sum þeirra bestu, en dugnaðurinn í vetraraðstæðunum vegur það vel upp.
Nokian Hakkapeliitta R2
Goodyear Ultra Grip Ice 2
Michelin X-Ice XI 3
Bridgestone Blizzak WS80
Nokian var lengi besta óneglda vetrardekkið á ís. Það er ennþá gott en ekki alveg það allra besta. Á hinn bóginn er það þó enn besta dekkið í snjó, bæði í hemlun og hröðun. Allir eiginleikar þess eru mjög jafnir sem gefur notalega öryggistilfinningu í akstri, enda kemur fátt ökumanni að óvörum. Í bleytu á auðum vegi er Nokian enn meðal hinna sístu vegna þess hve hemlunarvegalengd er mikil. Hefur lága núningsmótstöðu. (krefst minna eldsneytis)
Eins og í fyrra er Goodyear eitt besta óneglda vetrardekkið. Hröðun og hemlun á snjó og ís er með ágætum. Beygjugripið mætti vera eilítið betra þar. Þar á það til að tapast full snögglega þegar ystu getumörkum er náð. Á auðum, þurrum sem votum vegi er það ótvírætt það besta í þessari könnun. Þar hefur það stutta hemlunarvegalengd og er rásfast og öruggt í akstri og ekki síst þegar mikið liggur við á einhvern hátt. Mjög hljóðlátt.
Eins og í fyrra endar Michelin meðal bestu ónegldu vetrarhjólbarðanna. Veitir góða öryggistilfinningu við allar aðstæður. Hemlar vel og hefur góða hröðun á ís og í snjó og er rásfast og stöðugt í flestum aðstæðum sem upp geta komið í akstri. Það svarar vel stýrinu en getur átt það til að missa grip á framhjólunum. Veikleiki þess er hemlun á blautu malbiki en á þurru malbiki er það með þeim bestu. Hljóðlátt.
Í könnuninni fyrir ári reyndist Bridgestone ótryggt á ísnum. Það hefur greinilega verið lagfært því að Blizzak er nú eitt af þeim bestu á ís. Þar hemlar það vel og hröðunin er sömuleiðis góð. Í snjó er það nær meðallaginu og getur þar átt til að tapa fremur fljótt veggripinu þegar ystu getumörkum er náð. Svipað gerist við ystu þolmörk í akstri í bleytu. Það dregur niður einkunnina fyrir aksturstilfinningu. Meðal þeirra hljóðlátustu.
Hraðaþol:H (210 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags Vika 34, 2015 Framleiðsluland:Spánn
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 51, 2015 Framleiðsluland:Japan
Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Nei Innhlið/úthlið:Já Framleiðsludags: Vika 39, 2015 Framleiðslul:Þýskaland
Umboðsaðili: Sólning Verð per/stk: 33.990
Hraðaþol:R (170 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 8, 2016 Framleiðslul:Finnland
Umboðsaðili: Max1 Verð per/stk: 32.942
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 48, 2015 Framleiðsluland:Pólland
Umboðsaðili: Klettur Verð per/stk: 29.900
Umboðsaðili: N1 Verð per/stk: 32.990
Umboðsaðili: Betra Grip Verð per/stk: 30.950
Ónegld - aðaltafla Vægi % Bridgestone Continental Goodyear Hankook Landsail Michelin Nankang Nokian Pirelli Sava Yokohama Miðevrópu vetrard. 45 Hemlun 15 6 7 6 6 5 7 5 6 5 6 6 4 Hröðun 10 6 6 6 5 5 6 5 6 5 5 5 4 Akstur 10 8 9 8 8 7 8 7 9 7 8 7 4 Aksturseiginleikar 10 7 8 7 6 5 7 6 8 6 6 6 6 Snjór 20 Hemlun 5 8 8 8 8 6 8 8 8 8 8 8 5 Hröðun 5 7 7 8 8 5 7 7 8 7 7 7 6 Akstur 5 8 9 8 8 6 8 8 9 8 9 7 5 Aksturseiginleikar 5 7 9 9 9 6 8 7 9 8 8 6 7 Blautt malbik 15 Hemlun 5 6 6 7 6 9 6 5 6 6 6 6 10 Akstur 5 5 7 7 6 8 6 6 7 7 6 6 10 Aksturseiginleikar 5 5 7 8 6 9 7 5 7 7 7 6 10 Þurrt malbik 10 Hemlun 5 8 7 7 7 9 8 6 7 7 7 7 10 Aksturseiginleikar 5 7 6 7 5 7 7 5 6 6 6 6 9 Hagkvæmni - þægindi 10 Veggnýr 5 10 9 10 10 9 10 9 9 9 10 8 8 Núningsmótstaða 5 7 9 9 9 7 9 8 10 9 7 9 6 Heildareinkunn 100% 7 7,6 7,4 6,8 6,5 7,4 6,3 7,5 6,7 6,9 6,5 6,3
Ís
16
6,9
6,8
6,7
6,5
6,5
Sava Eskimo Ice
Hankook Winter i*cept IZ2
Pirelli Ice Zero FR
Landsail Winter Lander
Sava Eskimo er þokkalegasta óneglt vetrardekk með fremur jafna eða jafngóða eiginleika. Hröðun oh hemlun á ís er í góðu lagi en eiginleikar þess í bleytu mættu vera betri. En yfir heildina litið er það tiltölulega jafngott í flestu sem þýðir að það er traust vetrardekk þar sem fátt kemur á óvart, hvernig svo sem aðstæðurnar eru. Þá er það sérlega hljóðlátt.
Hankook á í þessu prófi eitt af bestu negldu vetrardekkjunum. Það er því sérkennilegt að þetta óneglda Hankook skuli hafna svo neðarlega á listanum. Eiginleikar þess á ís eru nálægt meðallagi ónegldu dekkjanna, bæði hvað varðar hemlun og hröðun. Hins vegar hemlar það verr í snjó en flest hinna. En þrátt fyrir það gefur það frá sér allgóða aksturstilfinning. Á þurrum sem votum auðum vegi er það í meðallagi. Kostur við það er hinsvegar hversu hljóðlátt það er í akstri.
Í fyrra kom Pirelli Ice Zero út sem eitt af betri ónegldu vetrarhjólbörðunum. Hvað síðan hefur gerst með nýju árgerðina vitum við ekki. Mynstrið og öll uppbyggingin virðist vera sú sama en það spjarar sig mun verr nú en þá, sérstaklega á ís. Þar er bæði hemlun og hröðun mun slakari en áður. Í snjónum er munurinn þó minni milli þess sem var í fyrra og er nú. Hins vegar er Pirelli ennþá ágætt og með þeim bestu í hemlun á auðum blautum vegi. En því miður þá er frammistaðan á ísnum þannig að hún fellir það svo neðarlega á listann sem raunin er.
Þetta kínverska dekk gæti staðist samanburð við vetrarhjólbarða sem gerðir eru fyrir milda vetur í Mið-Evrópu fremur en þá sem gerðir eru til að mæta hörðum vetrum á norðurslóðum. Landsail hemlar ekki vel á ís og ekki þarf mikið til að það skriki til hliðanna. Aksturstilfinning er þannig ótrygg á ísnum en það er hún einnig í snjónum þar sem bæði hröðunar- og hemlunargrip er lítið. Á auðum vegi bæði þurrum og blautum er dekkið hins vegar í essinu sínu og hemlar og keyrir betur en öll hin.
Yokohama Ice Guard ig50 Plus Yokohama Ice Guard reyndist hafa nokkuð jafnlitla getu í öllum prófunarþáttum þessa prófs. Það er aldrei lélegast í einhverju einu en nær heldur hvergi yfir meðallag í þeim þáttum sem lúta að akstri í snjó, á ís og í bleytu. Veikasti þátturinn er aksturstilfinning í snjó sem er ótrygg. Það tapar þar veggripi fyrirvaralítið þegar getumörkum þess er náð og þá er erfitt að ná aftur stjórn á bílnum.
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei015 Framleiðslud:Vika 39,2016 Framleiðsluland:Rússland
Hraðaþol:H (210 km/h) Burðarþolskóði:91 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 9, 2016 Framleiðsluland:Kína
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 50,2015 Framleiðsluland:Pólland
Umboðsaðili: Klettur Verð per/stk: 17.100
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðslud:Vika 8, 2016 Framleiðsluland: Kórea
Umboðsaðili: Sólning Verð per/stk: 22.990
Umboðsaðili: Bílabúð Benna
Verð per/stk: 31.990
Hraðaþol:Q (160 km/h) Burðarþolskóði:91 Snúningsstefna:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 17, 2015 Framleiðsluland: Japan Umboðsaðili: Dekkjahöllin
Verð per/stk: 22.870
6,3 Nankang Ice Activa Ice-1 Hið kínverska Nankang vermir botnsætið í flestum þáttum prófsins eins og það gerði reyndar líka í fyrra. Það skortir veggrip á ís, bæði í hemlun, hröðun og í beygjum. Svipaða sögu er að segja akstri í snjó. Beygjugrip er lélegt sem gerir aksturinn óöruggari. Hemlunarvegalengdin er löng í bleytu. Hið jákvæða er að dekkið er ódýrt. Hraðaþol:Q (160 km/h) Borðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: Vika 7, 2016 Framleiðsluland:Kína
17
Hemlun á ís
Hemlun á ís Negld
Negld
Tegund
Nokian Bridgestone continental Pirelli Goodyear Hankook Kumho Michelin Toyo Gislaved Michelin
Ónegld
Veggnýr
Veggnýr Negld
Negld Tegund
Bridgestone Goodyear Hankook Michelin Sava Continental Landsail Nankang Nokian Pirelli Continental
Einkunn
10 10 10 10 10 9 9 9 9 9 8
Hröðun á ís
Negld
Pirelli Bridgestone Nokian Continental Hankook Goodyear Michelin Toyo Gislaved Kumho Continental
18
Negld
Tegund Hemlunarvegal. Ím
Continental Bridgestone Goodyear Sava Nokian Hankook Yokohama Landsail Nankang Pirelli Continental
57,9 58,9 60,3 61 61,7 62,6 63,9 66,8 68,8 70,2 77,9
Tími í sek. 3,5 3,6 3,6 3,8 4 4,5 4,9 5 5,1 5,4 6,9
Ónegld Tegund
49,5 49,6 50,7 50,9 50,9 52 52,3 52,5 52,6 52,7 52,9
Negld Miðevrópskt vetrard.
Negld
Einkunn
Yokohama Gislaved Pirelli Goodyear Kumho Michelin Toyo Bridgestone Continental Hankook Nokian
Ónegld
Hankook Goodyear Continental Gislaved Pirelli Nokian Nokian Michelin Kumho Bridgestone Continental
Vegalengd í m
Ónegld
Ónegld
Tegund
Vegalengd í m
Goodyear Pirelli Sava Bridgestone Michelin Yokohama Hankook Nankang Toyo Landsail Continental
53,1 53,1 53,1 53,2 53,2 53,3 53,6 53,6 53,7 56,6 60,2
Brautarakstur á blautu malbi
Ónegld
Tegund
Miðevrópskt vetrard.
Brautarakstur á blautu malbiki
Ónegld
Hröðun á ís Negld Tegund
Negld
Ónegld
Hemlunarvegal. Í m Tegund 39,7 40,2 42,9 43 44,8 46,4 49,9 51,4 51,5 52,8 55,7
Hemlun í snjó
Hemlun í snjó
8 7 7 6 6 6 6 5 5 5 5
Tegund
Continental Pirelli Landsail Continental Gislaved Goodyear Michelin Continental Nokian Pirelli Nokian
Tími í mín. 35,4 38,1 38,5 39 39,5 39,5 39,7 39,9 40 40 40,1
Hröðun í snjó
Hröðun í snjó Negld
Negld Tími í sek Tegund
Michelin Bridgestone Goodyear Nokian Hankook Sava Yokohama Landsail Pirelli Nankang Continental
6,9 7,3 7,3 7,4 8 8,1 8,2 8,7 8,9 9,3 10,3
Goodyear Hankook Continental Nokian Pirelli Bridgestone Goodyear Nokian Gislaved Sava Hankook
Tími í sek. 5,5 5,5 5,7 5,7 5,7 5,8 5,9 5,9 6 6 6,1
Ónegld
Mið-evró
Ónegld Tegund
Tími í mín.
Bridgestone Goodyear Hankook Toyo Kumho Michelin Sava Hankook Nankang Yokohama Bridgestone
40,3 40,3 40,4 40,4 40,5 40,9 40,9 41,2 41,2 41,4 41,7
Ónegld
Ónegld
Tegund
Tími í sek.
Michelin Bridgestone Continental Michelin Nankang Pirelli Yokohama Continental Kumho Toyo Landsail
6,1 6,2 6,2 6,2 6,2 6,2 6,2 6,4 6,4 6,4 6,7
Brautarakstur í snjó
Brautarakstur í snjó Negld
Negld
Tegund
Continental Hankook Nokian Continental Nokian Goodyear Sava Goodyear Hankook Bridgestone Pirelli
Tími í sek. 53 53,7 54,1 54,6 54,6 54,8 54,8 54,9 54,9 55 55,2
Brautarakstur á ís
Brautarakstur á ís
Negld Mið-Evrópu vetrardekk
Ónegld
Ónegld Tegund
Tími í sek.
Bridgestone Michelin Pirelli Nankang Michelin Gislaved Toyo Yokohama Kumho Landsail Continental
55,8 55,8 55,8 56 56,1 56,3 56,8 56,9 57,6 57,8 59,4
Negld
Tegund
Bridgestone Continental Nokian Goodyear Michelin Hankook Pirelli Continental Gislaved Toyo Nokian
Ónegld
Brautartími í sek. 52,9 53,5 54,3 54,5 54,6 54,7 55,6 56,3 56,3 56,4 56,6
Ónegld Tegund
Brautartími í sek.
Bridgestone Goodyear Hankook Michelin Sava Kumho Nankang Yokohama Pirelli Landsail Continental
58,1 59,1 59,3 59,6 59,8 60,2 61,5 61,5 62,9 64,3 74,6
Hemlað á þurru malbiki Hemlun Hemlun á blautu malbiki á blautu malbiki
Hemlað á þurru malbiki Negld
Negld
Tegund
Continental Landsail Bridgestone Michelin Nokian Continental Toyo Michelin Yokohama Goodyear Pirelli
Ónegld
Vegal. í m 35 36,8 38,3 38,5 38,6 38,7 38,8 38,9 38,9 39 39,1
Ónegld Tegund
Miðevrópu Negld vetrard
Vegal. í m
Hankook Kumho Nokian Sava Continental Pirelli Gislaved Nankang Bridgestone Goodyear Hankook
39,3 39,4 39,4 39,7 40,2 40,2 40,5 40,5 40,8 41,5 41,6
Núningsmótstaða
Núningsmótstaða Negld
Negld
Tegund
Nokian Bridgestone Yokohama Hankook Goodyear Michelin Pirelli Continental Goodyear Hankook Nankang
Aukin eldsn.eyðsla Tegund 0% 0,70% 0,70% 0,70% 0,90% 0,90% 1,00% 1,00% 1,20% 1,40% 1,60%
Tegund
Continental Landsail Continental Pirelli Gislaved Goodyear Michelin Toyo Hankook Mnokian Kumho
Ónegld
Vegal. í m
Tegund
31,2 34,5 38,4 38,6 39,3 40,3 40,4 41 41,4 41,6 41,7
Mið-Evró
Vegal. í m
Bridgestone Goodyear Pirelli Bridgestone Continental Hankook Sava Yokohama Michelin Nokian Nankang
42,3 42,3 43,3 44,3 44,3 44,4 44,9 44,9 45 45,4 46,7
Aksturseiginleikar Aksturseiginleikar Aksturseiginleikar á ís á ís á ís
Ónegld
Ónegld
Negld
Ónegld
Miðevrópskt Negld Negld vetrard.
Ónegld Ónegld
Negld
Aukin eldsn.eyðsla Tegund Tegund Einkunn.Einkunn.
Sava Landsail Gislaved Continental Nokian Toyo Bridgestone Michelin Pirelli Continental Kumho
1,80% 1,90% 2,00% 2,00% 2,10% 2,10% 2,10% 2,20% 2,80% 2,80% 2,90%
Nokian Nokian 10 Bridgestone Bridgestone 9 Continental Continental 9 GoodyearGoodyear 9 Hankook Hankook 9 Continental Continental 8 Gislaved Gislaved 8 Michelin Michelin 8 Nokian Nokian 8 Pirelli Pirelli 8 Bridgestone Bridgestone 7
10 9 9 9 9 8 8 8 8 8 7
Ónegld
Tegund Tegund EinkunnEinkunn
GoodyearGoodyear 7 Kumho Kumho 7 Michelin Michelin 7 Toyo Toyo 7 Continental Continental6 Hankook Hankook 6 Nankang Nankang 6 Pirelli Pirelli 6 Sava Sava 6 Yokohama Yokohama 6 Landsail Landsail 5
19
7 7 7 7 6 6 6 6 6 6 5
Hvað kostar umfelgun og jafnvægisstilling á fjórum 16 tommu álfelgum?
70% munur á hæsta og lægsta verði
Þ
riðjudaginn 18. október kannaði FÍB verð á umfelgun hjá nokkrum dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni á þessu hausti. Spurt var: Hvað kostar umfelgun og jafnvægisstilling á fjórum 16 tommu álfelgum. Beðið var um listaverð án allra afslátta eða sérkjara eins og FÍBafsláttar, eldri borgara afsláttar o.s.frv. Það skal tekið fram að sum fyrirtækin í könnuninni gefa enga afslætti á þau verð sem gefin eru upp. Miðað var við dekkjaskipti á Toyota Corolla með hjólastærð 205/55 R16, sem er ein algengasta hjóla- og dekkjastærð fólksbíla. Lægsta verðið reyndist hjá Dekkverk í Kópavogi/Garðabæ, kr. 5.900. Hæst var það hjá Dekkjahöllinni kr. 9.978. (Sjá nánar í töflu). Munur á hæsta og lægsta verði er 69%. Þann fyrsta nóvember gengur hinn formlegi vetrardekkjatími í garð, þegar löglegt verður að aka á negldum vetrarhjólbörðum. Samkvæmt hefðinni má reikna með mikilli ös á hjólbarðaverkstæðum á þessum degi sem að þessu sinni ber upp á þriðjudag. Jafnframt má reikna með mikilli ös í hjólbarðaskiptunum þegar fyrstu snjóar falla. Könnunin fór fram í gegnum síma. Spurt var um listaverð á þessari þjónustu sem fyrr segir. Eingöngu var kannað verð á þessari tegund bifreiðaþjónustu. Ekkert var spurt um gæði þjónustunnar og hugsanlegan mun á þeim. Einvörðungu var miðað við álfelgur enda má gera ráð fyrir því eftir lauslega athugun að álfelgur séu undir um 2/3 hlutum fólksbíla.
20
Hjólbarðaverkstæði
Staðsetning
Verð Dekkverk Kópavogi/Garðabær 5.900 Bílaverkstæði Jóa Kópavogur 5.920 Dekkjahúsið Reykjavík 5.990 Dekkjasalan Hafnarfjörður/Garðabær 6.000 Bílkó Kópavogur 6.500 Bifreiðaverkstæði S.B. Ísafjörður 6.524 Nesdekk Reykjavík/Garðabær/Reykjanesbær 6.590 Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárskrókur 6.634 Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar Ísafjörður 6.690 Vaka Reykjavík 6.893 Nicolai Reykjavík 6.900 VIP dekk og viðhald Reykjavík 6.900 Bón og púst Egilsstaðir 6.900 Sólning Kópavogi/Hafnarfirði/Njarðvík/Selfoss6.930 Bílabúð Benna Reykjavík 7.322 Hjólbarðaverkstæði SigurjónsReykjavík 7.350 Pústþjónusta BJB Hafnarfjörður 7.380 Betra grip Reykjavík 7.400 Klettur Reykjavík/Garðabær 7.490 Kvikkfix Hafnarfjörður 7.550 Barðinn Reykjavík 7.700 Mótorstilling Kópavogur 7.760 Hekla Reykjavík 7.795 Vélsmiðja Hornafjarðar Höfn 7.824 Smur- og hjólbarðaþjónustanReykjanesbær 8.600 8.605 Gúmmívinnustofa SP dekk Reykjavík 8.932 Höldur Akureyri 9.045 N1 Rvk/Hfj/Mosfellsb./Akranes/Reykjanesbær 9.173 Dekkjasala Akureyrar Akureyri 9.200 Smurstöðin Klöpp Reykjavík 9.300 Dekkjahöllin Reykjavík/Egilsstaðir/Akureyri 9.978 Max 1
Reykjavík/Hafnarfjörður
www.n1.is
facebook.com/enneinn
Rúllaðu inn í veturinn á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
N1
Michelin X-ICE
Hljóðlát og naglalaus vetrardekk Ný APS gúmmíblanda tryggir gott grip í kulda og hita Frábærir aksturseiginleikar
Michelin X-ICE NORTH 10% styttri hemlunarvegalengd á ís Færri naglar en meira grip Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu
Michelin Alpin 5 Endingargóð naglalaus vetrardekk Sérhönnuð fyrir fjölskyldu- og borgarbíla Mikið skorið og stefnuvirkt munstur sem veitir frábært grip við erfiðar aðstæður
Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu
440-1318 440-1322 440-1326 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi
440-1378 440-1374 440-1372 440-1394
Opið mán – fös laugardaga www.n1.is
kl. 08-18 kl. 09-13
Hluti af vetrinum 21
BÍLAPRÓFUN FÍB ÖRYGGISMÁL
telst sérlega öruggur. Hann var því sérstaklega valinn í þessa könnun til viðmiðunar við bakvísandi stólana átta. Niðurstaðan er sú að hvað varðar öryggi kemst hann ekki í námunda við bakvísandi stólana. Stólarnir voru prófaði í framanákeyrslu á 50 km hraða og ákeyrslu frá hlið þar sem höggið jafngilti því að ákeyrslufarartæki á 24 km hraða rækist inn í hlið bílsins sem barnið sat í. ,,barnið,” þ.e.a.s árekstursbrúðan var að stærð og þyngd eins og flest 18 mánaða gömul börn.
Bakvísandi stólar öruggastir Könnun NAF 2016 á barnabílstólum fyrir börn allt að 18 kíló að þyngd:
Öruggasti barnabílstóllinn í öryggisprófi NAF og Testfakta reyndist vera Cybex Sirona M. Sístir reyndust Recaro Monza Nova IS og Biltema 39-810. Nýtt öryggispróf NAF í Noregi og Testfakta í Svíþjóð á barnabílstólum. Staðfestir enn og aftur að bakvísandi stólar eru þeir öruggustu fyrir börnin. Allir barnabílstólar sem boðnir eru til sölu og ætlaðir eru til til nota í Evrópu fyrir börn í bílum verða að hafa staðist tilteknar lágmarkskröfur og hafa hlotið opinbera viðurkenningu sem heimilar almenna sölu á þeim. Í þessari prófun sem gerð var í rannsóknastöð TRL The Future of Transport í Bretlandi fyrir NAF, systurfélag FÍB í Noregi og Testfakta í Svíþjóð, var markið hins vegar sett hærra og stólarnir prófaðir ítarlegar og eftir harðari slysaforsendum. Þá kom í ljós verulegur munur á gæðum og á öryggi stólanna og hversu vel þeir vernda börnin ef slys á sér stað. Prófið nær til alls níu barnabílstóla fyrir ,,meðalstór” börn – það er að segja börn sem eru allt að 18 kíló að þyngd. Flestir stólanna voru festir í bílinn með Isofix festibúnaði sem gerir það mjög auðvelt að 22
festa sætin í bílinn og fjarlægja svo aftur að notkun lokinni. Stóllinn frá Biltema var hins vegar án Isofix festibúnaðar en festur í bílinn með öryggisbeltinu. Búið að festa stól með árekstursbrúðunni niður á prófunarsleðann. Nákvæmur tæknibúnaðurinn í brúðunni safnar ítarlegum gögnum um höggið og áhrif þess á barnslíkamann og líffærin í árekstrinum. Afturvísandi öruggari Það hefur lengstum verið viðurkennt að bakvísandi barnastólar í bílum eru almennt öruggari en framvísandi. Þessi nýja könnun sem breska, óháða rannsóknastofnunin TRL, The Future of Transport hefur gert á átta bakvísandi barnastólum og einum framvísandi staðfestir þetta. Eini framvísandi stóllinn í könnuninni er af gerðinni Recaro en hann hefur komið afar vel út í öðrum barnastólakönnunum og
– Niðurstöður prófunarinnar undirstrika fyrst og fremst hversu mikilvægt það er að foreldrar velji bakvísandi barnastóla. Bakvísandi stóll ver höfuð, háls og líkama barns ef framanákeyrsla á sér stað. Höggþunginn í árekstrinum getur beinlínis verið banvænn ef barnið situr í framvísandi stól, segir Anders Kullgren prófessor og yfirmaður slysarannsókna hjá sænska tryggingafélaginu Folksam og einn þeirra sem yfirfór og lagði mat á niðurstöður prófananna. Mikill munur Mikill munur reyndist vera milli bakvísandi stólanna á því hversu vel þeir vörðu ,,börnin” í þessu prófi. Þannig reyndist álag á hnakka og háls vera fimm sinnum minna í stólunum frá Askid og Biltema en í stólnum frá BeSafe sem að öðru leyti kemur ágætlega út. Þetta kom á óvart en skýringar á því er að leita í talsverðum halla á sætisbaki BeSafe stólsins að sögn Anders Kullgren. Álag á háls reyndist einnig mikið í Rearo stólnum en stærstur hluti skýringarinnar á því er sú að hann er framvísandi. Bílstólarnir sem prófaðir voru í þessu barnastólaprófi NAF 2016 eru Cybex Sirona M, Concord Reverso Plus, Klippan Triofix Comfort, Be Safe Izi Modular, Axkid Rekid, Maxi Cosi Pearl XP, Britax Römer Dualfix, Biltema 39-810 og Recaro Monza Nova IS. –Í stólunum frá Biltema og Axkid er bakið beinna sem þýðir það að vörn fyrir hnakka og háls er meiri. En mér sýnist sessan í Biltema-
stólnum vera nálægt því að vera lárétt, en það eykur hættu á því að höfuð barnsins kastast fram á við og það er ekki nógu gott, Segir Anders Kullgren. Barnastóllinn má ekki halla um of Barnastólarnir voru festir í prófunarbúnaðinn samkvæmt fyrirmælum framleiðenda. Þegar búið er að festa þá er hægt að stilla hallann á sessunni í sökkli stólsins. -Auðvitað ber manni að fylgja leiðbeiningum framleiðanda en það er mikilvægt að halli sessunnar í sökkli stólsins verði ekki meiri en 30 gráður. Þannig er ekki æskilegt að halla sætinu of mikið til þess að barnið eigi betra með að sofna í
stólnum, segir Anders Kullgren. Vernd höfuðs og háls Vörn sú sem barnastólum ber að veita í hliðarárekstri var prófuð í samkvæmt hinum nýja staðli R 129 sem um helmingur stólanna hafðir fengið öryggisvottun út á. Í ljós kom að þeir sem höfðu fengið umrædda R 129-vottun reyndust veita betri vörn í hliðarárekstrum en hinir, sérstaklega vörðu þeir höfuð barnanna betur. Minnsta vörn höfuðsins veittu Biltema- og Britax stólarnir og báðir reyndust undir viðmiðunarmörkum. – Þetta er svo vegna þess að ból-
strun í hliðarvörnunum er of þunn og dempar því högg ekki nægilega og nær ekki að halda höfðinu í réttum skorðum, segir Kullgren. En hvað varðar hnakkavörn þá reyndis hún lélegust í Concord stólnum. Í prófuninni rykktist höfuðið út af hliðarvarnareyrum stólsins. - Concord er hins vegar meðal þeirra bestu í framanákeyrslu. En þegar Concord er borinn saman við Cybex sem ver hnakkann best, er munurinn mjög skýr. Í Cybexstólnum er höfuðið alveg umlukið í sætinu. Concort er hins vegar með sérstaka viðfesta höfuðvörn sem er allt of lítil, segir Kullgren. Besti stóllinn í prófuninni
Cybex Sirona M - 4,2
Concord Reverso Plus - 4,1
Klippan Triofix Comfort - 4,0
Helstu upplýsingar Vottun/merking* R129, PLUS Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 61 - 105 cm Hámarkshæð barna - (sm) 92 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). ** Höfuð (g-kraftar, 3ms) 47 / 55 Háls (Z-kraftar, Newton) 788 / 1359 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 48 / 105 Brjóstkassi (g-kraftar) 44 / 86
Helstu upplýsingar Vottun/merking* R44 Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 9 – 18 kg Hámarkshæð barna - (sm) 80 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms) 60 / 72 Háls (Z-kraftar, Newton) 710 / 681 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 51 / 87 Brjóstkassi (g-kraftar) 44 / 86
Besti stóllinn í þessari prófun. Ver barnið vel bæði í framanákeyrslu og ákeyrslu frá hlið. Auðveldasti stóllinn til að festa í bílinn og sá auðveldasti í notkun og umgengni. Helstu upplýsingar Vottun/merking* R129, PLUS Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 45 - 105 cm Hámarkshæð barna (sm) 102 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). ** Höfuðt (g-kraftar, 3ms) 63 / 57 Háls (Z-kraftar, Newton) 788 / 278 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 47 / 129 Brjóstkassi (g-kraftar) 44 / 76
Sá besti í framanákeyrslu en sístur í ákeyrslu frá hlið. Höfuðið kastaðist út úr höfuðvörninni.
Sá besti í framanákeyrslu en heldur síðri í ákeyrslu frá hlið.
Umboðsaðili: Ólavía og Oliver Verð kr. 79.990
23
Staðreyndir um prófunina Hið breska TRL The Future of Transportation er sjálfstætt og óháð rannsóknastofnun sem áður hefur framkvæmt rannsóknir og prófanir fyrir bæði NAF í Noregi og Testfakta í Svíþjóð. Þetta barnastólapróf beindist fyrst og fremst að afturvísandi stólum en Recaro stóllinn valinn sérstaklega sem mjög góður framvísandi
barnastóll til að fá sem skýrastan samanburð. Framvísandi barnastólar eru ríkjandi í Evrópu. Afturvísandi stólar eru hins vegar fremur sjaldgæfir. Allir stólarnir sem prófaðir voru eru gerðir fyrir börn frá 18 kílóum að þyngd. Prófanir á þeim fóru síðan fram í árekstrarprófunarstöð TRL skammt utan við London. Þær voru gerðar samkvæmt staðlinum R129 en höggþunginn var þó aukinn úr 26 g í 32 g. (32 g jafngildir 32-faldri líkamsþyngd). Við framanákeyrslu var hraðinn50 km á klst. Í hliðarárekstri var hraðinn 24 km/klst. Árekstursbrúðan í stólunum var
áþekk að stærð og þyngd og 18 mánaða gamalt barn. Í henni voru skynjarar, mælar og upptökutæki sem mældu áhrif árekstra á líkamann og einstök líffæri, einkum á höfuðið, hnakka og háls, mjaðmir, brjóstkassa og maga. Stólarnir voru festir á prófunartækin á sama hátt og í bíla og farið var við það eftir fyrirmælum framleiðenda. Borið var saman hversu auðvelt var að festa stólana og að festa barnið í þá og hversu festingar héldu síðan barninu. Við samantekt gagna og samanburð ,,áverka” á einstaka líkamshluta til að reikna út niðurstöður var stuðst við ýmsa tölfræði úr raun-
Be Safe Izi Modular - 4,0
Axkid Rekid - 3,6
Maxi Cosi Pearl XP - 3,6
BÍLAPRÓFUN FÍB ÖRYGGI BARNANNA
reyndist stóllinn frá Cybex. Hann reyndist vel í bæði framanákeyrslu og hliðarárekstri. Auk þess var auðveldast að koma honum fyrir í bílnum og festa rétt og tryggilega og nota.
Sá besti í hliðarákeyrslu en síðri fyrir hálsinn í framanákeyrslu. Helstu upplýsingar Vottun/merking* R129 PLUS Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 61 – 105 sm Hámarkshæð barna - (sm) 106 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms) 61 / 47 Háls (Z-kraftar, Newton)1086/ 670 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 56 / 82 Brjóstkassi (g-kraftar) 50 / 42
24
Of lítil vörn í bæði framaná- og hliðarákeyrslum. Ver brjóskassan verst af stólunum í könnuninni. Helstu upplýsingar Vottun/merking* R44 PLUS Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 9 – 18 kg Hámarkshæð barna - (sm) 106 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms)74 / 84 Háls (Z-kraftar, Newton) 261/ 598 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 63 / 898 Brjóstkassi (g-kraftar)57 / 96
Of lítil vörn við framanákeyrslu. Helstu upplýsingar Vottun/merking* R129 PLUS Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 67 – 105 sm Hámarkshæð barna - (sm) 110 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms)74 / 58 Háls (Z-kraftar, Newton) 581/ 591 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 54 / 124 Brjóstkassi (g-kraftar)62 / 73
Umboðsaðili: Fifa Verð kr. 39.900
fix festibúnað en með bílbeltunum. • Gakktu úr skugga um að sætið halli ekki of mikið. • Einu gildir hvort bakvísandi stóll er festur í aftursæti eða í farþegasætið frammi í bílnum.
• Hliðarákeyrsla Höfuð 32 prósent, háls 30 prósent, mjaðmir 24 prósent, brjóstkassi 14 prósent. Í lokaniðurstöðunni er vægi framanákeyrslu þrefalt á við samanlagt vægi hliðarákeyrslu og hversu auðvelt er að festa og losa stólinn.
Mikilvægt að muna • Barn allt að fjögurra ára gamalt ætti alltaf að sitja í bakvísandi stól. Það dregur allt að fimmfalt úr líkum á bana. • Aðgættu vandlega áður en þú kaupir barnastól, hve hávaxið barnið er sem á að nota barnastólinn. Höfuð barns má aldrei gnæfa yfir kant barnasætisibaksins. • Plus-prófuð barnasæti tryggja að vörn þeirra gegn hálsmeiðslum er a.m.k. viðunandi. • Festu barnasætið alltaf rétt í bílinn og farðu eftir leiðbeiningum framleiðandans. Það getur skipt sköpum ef slys á sér stað. Mun auðveldara er að festa sæti rétt í Iso-
Britax Römer Dualfix - 3,5
Biltema 39-810 - 3,4
Recaro Monza Nova IS - 2.3
Helstu upplýsingar Vottun/merking* R44 PLUS Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 0 – 18 kg Hámarkshæð barna - (sm) 83 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms) 61 / 95 Háls (Z-kraftar, Newton) 193/ 586 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 78 / 78 Brjóstkassi (g-kraftar)66 / 67
Helstu upplýsingar Vottun/merking* R44 Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 9 – 18 kg Hámarkshæð barna í stólnum - (sm) 92 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms) 67/ 69 Háls (Z-kraftar, Newton)1191 / 542 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 64 / 82 Brjóstkassi (g-kraftar) 43 / 64
verulegum slysum og nýjar og eldri niðurstöður slysarannsókna. Vægi einstakra þátta í lokaniðurstöðum voru eftirfarandi: Framanákeyrsla Höfuð 32 prósent, háls 30 prósent, mjaðmagrind 14 prósent, brjóstkassi 14 prósent, kviður 10 prósent. •
Of lítil vörn fyrir höfuðið, sérstaklega í hliðarákeyrslu. Helstu upplýsingar Vottun/merking* R44 Uppgefin stærð barnanna (hæð í sm eða þyngd í kg)*** 0 – 18 kg Hámarkshæð barna - (sm) 90 Mælt álag á barnslíkamann við framanákeyrslu (50 km/klst.) / ákeyrslu frá hlið (24 km/klst.). Raunálag / viðmiðunarmörk (umfram viðm.mörk feitletrað)** Höfuð (g-kraftar, 3ms)71 / 93 Háls (Z-kraftar, Newton) 875/ 743 Mjaðmagrind (g-kraftar, 3ms) 71 / 109 Brjóstkassi (g-kraftar) 50 / 82
Umboðsaðili: Fifa Verð kr. 94.990
Ver vel við framákeyrslu. Vörnin er síðri í hliðarákeyrslu, sérstaklega fyrir höfuðið.
Stenst ekki samanburð við bakvísandi stólana. Sérlega léleg vörn í framanákeyrslu.
Umboðsaðili: Bílasmiðurinn Verð kr. 47.880
25
umtalsvert en hækkuðu ekki eins og Ný bensínvél slær dísilvélar út í afli og sparneytni Ný vísitala mælir hækkun bílatrygginga vísitalan segir nú.
IÍ
nfiniti; lúxusmerki Nissan, kynnti nýja bensínvél; VC-T, á bílasýningunni í París nýlega. Hin nýbirtri neysluverðsvísitölu hefur nýja fjögurra strokka, 2ja l VC-T það undarlega gerst að þrátt fyrir bensínvél er 27% sparneytnari en 3,5 lækkun ábyrgðartrygginga bíla í sl.en l V6 vélin sem hún leysir af hólmi mánuði mælir vísitalan hefur sambærilegt afl oghið tog.gagnstæða Nýja –vélin hækkun. Staðreyndin er er þannig sögð markahins vegar sú að ábyrgðartryggingar meiri-háttar tímamót. ökutækja Í yfirlýsingu frá Nissan í Japan er vélin sögð verða fyrsta fjöldaframleidda bílvél sögunnar sem er með breytilegu þjöppunarhlutfalli (variable compression ratio). Það þýðir að vélin stillir þjöppunarhlutfallið af eftir ökulagi og lækkálagi hverju sinni sem uðu kjölfar segjaí má að sé grundmik-illar hreyfingar á viðskiptavinum vallarforsenda þess að sem best tryggingafélaganna þegar þeir sögðu samræmi náist milli afls, afkasta upp tryggingunum í hrönnum til og hámarks orkunýtingar bensínað mótmæla fyrirhug-uðum ofuravéla. Aflið er á við það mesta í ámóta rðgreiðslum félaganna til hluthafa.
rúmtaksstórum túrbínuvensínvélum en togaflið miklu meira en þekkst hefur í bensínvélum hingað til, heldur Í nýju neysluverðsvísitölunni einvörðungu þekkst í dísilvélumsegir núað sú undirvísitala sem nefnist rekstur tímans og í tvinnbíl-um. Eldsneytisbifreiða hafi hækkað um 4,5% frá eyðslan síðasta mánuði. Það getur ekki staðist þar sem tryggingaiðgjöldin lækkuðu í kjölfar hvellsins sem varð þegar tryggingafélögin hugðust greiða hluthöfum sínum ofurarð í sl. mánuði. Það var FÍB sem fyrst vakti athygli á fyrirhuguðum ofurarðgreiðsl-um og verulegum viðbótarhækkunum iðgjalda í kjölfar þeirra í ofanálag við þær hækkanir sem gildi tóku um sl. áramót. (Sjá umfjöllun á bls. 20 hér í blaðinu). Almenningi ofbauð ósvífnin og sagði unnvörpum upp tryggingum sínum og leitaði tilboða hjá minnsta tryggingafélaginu og því eina sem ekki hafði boðað ofurarðgreiðslur. Ofur-arðstryggingafélögin brugðust m.a. við með því að gefa viðskiptavinum verðursínum gagntilboð og lækka iðgjöldin, sem svipuð og í sambærivarð til þess að heildariðgjöld löglegum dísilvélum hvað varðar afl og bundinna ábyrgðartrygginga lækkuðu
BÍLAPRÓFUN FÍB TÆKNI
- ætti að sýna lækkun eftir fjöldauppsagnir og umrót í sl. mánuði
26
Að þessiÞetta þáttur vísitölunnar hafi tog vinnslu. tvennt; afl og mikið hækkað en ekki lækkað gengur hefur hingað til gengið erfiðlega að einfaldlegaí bensínvélum. ekki upp og því setti FÍB samræma blaðið sig í samband viðfjögurra Hagstofu Hin nýja VC-T vél er Íslands til að spyrja hverju þetta sætti. strokka, 2,0 l að rúmtaki með túrbínu. Eftir að málið hafði verið kannað Afl hennar og tog er svipað og hjá þar 3,5 kom það svar aðsem í rauninni l,innanhúss V6 strokka bensínvélinni hún væri vísitalan núna mæla áhrifsparleysir nú af hólmi enaðhún er 27% þeirra iðgjaldahækkana sem um neytnari. Einn viðbótarkostururðu hennar síðustu áramót. Þetta væri vegna þess sem vert er að gefa gaum er sá að hún að er tryggingafélögin skila inn upplýsverulega ódýrari í framleiðslu ingum til vísitöludeildar Hagstofunnar en þær túrbínudísilvélar sem eru mun sjaldnar en mánaðarlega sem sambærilegar að afli og eyðslu. svo afturEnnfremur þýðir það að nýjasti tryggingefur hún frá sér gaverðsþáttur neysluverðsvísitölunnar miklu minni mengunarefni, byggi ásvo þriggja til fjögurra mánuðaog sem níturoxíðsambönd gömlum upplýsingum. sótagnir en dísilvélar gera. Því Iðgjöld lögbundinna þarfnast hún ekkibifreiðatrygginjafn flókins og ga skipta umtalsverðu máli í neysludýrs mengunarvarna-búnaðar verðsvísitölunni og í heild skipta allar og þær. ,,Dísilvél-unum fylgja breytingar á henni landsmenn miklu erfið vandamál en við trúum því máliaðá þann háttkomnir að húsnæðisskuldir við séum með þá landsmanna eru beintengdar vísitölunbensínvél í hendurnar sem leyst ni. Hækki vísitalan hækka skuldirnar getur hina flóknu dísilvél en lækki hún (sem”nánast aldrei gerist) nútímans af hólmi, sagði Kinichi þá lækka skuldirnar. Tanuma þróunarstjóri Infiniti við japanska blaðamenn.
9
Fremur auðvelt að opna og stela milljónum nýrra og nýlegra bíla
B
reskir og þýskir vísindamenn hafa fundið gloppu í fjarstýrðum læsingum fjölmargra tegunda og gerða nýrra og nýlegra bíla. Auðvelt er að panta teikningar og efni á Netinu, greiða fyrir það fáeina þúsundkalla og setja síðan saman rafræna ,,þjófalykla” sem opnað geta milljónir bíla og ræst þá. Innbrot í nýja og nýlega bíla virðast hafa verið að færast í vöxt í grannlöndunum. Algengt er að fólk sjái þess merki að farið hefur verið inn í bíla þess á bílastæðum og stolið úr þeim töskum, myndavélum og öðrum farangri. Í seinni tíð hefur það færst í vöxt að bílunum sé stolið í heilu lagi. Engar skemmdir eða ummerki um innbrot sjást á bílunum sem stolið var úr né á stolnu bílunum, ef þeir þá finnast á annað borð. Þetta varð vísindamönnum við háskólann í Birmingham í Bretlandi og hjá þýska verkfræðifyrirtækinu Kasper & Oswald tilefni til að rannsaka málið. Sú rannsókn leiddi til þess að fyrrnefnd öryggisgloppa fannst. Hún gerir þjófum það mögulegt að opna bíla með sérstökum ,,þjófalyklum” sem virka þannig að þeir nema merki frá fjarstýringu eigandans þegar hann læsir bíl sínum. Þetta merki er vistað í ,,þjófalyklinum” og nýtist síðan til að opna bílinn þegar eigandinn er á braut. En til að geta ræst síðan bíl með lykillausri ræsingu og stolið honum í heilu lagi þarf bílþjófurinn að búa yfir
staðgóðri rafeindafræðiþekkingu og nahafnar. Engar skemmdir eða önnur að hafa auk þess komist yfir sérstakan merki um innbrot voru á bílnum. kóða sem almennt ætti ekki að vera á Eigandinn kvaðst hafa læst bílnum glámbekk. Því vara vísindamennirnir þegar hann kom heim til sín að kvöldi eindregið við því að bílaframleiðendmeð fjar-stýringunni og gengið úr ur og íhlutaframleiðendur gefi þessa skugga um að allar dyr væru læstar kóða upp. Það leiði til þess að þjófar áður en hann fór inn til sín. geti gengið að mílljónum bíla um Morguninn eftir var bíllinn svo veröld víða og keyrt í burt á þeim. horfinn. Ljóst þykir að einhverskonar Í skýrslu sinni tilgreina vísindarafeindabúnaður hafi verið notaður til mennirnir sérstaklega flestalla bíla frá að opna bílinn og ræsa hann. VAG (Volkswagen og dótturfélögum) sem framleiddir hafa verið síðan 1995, að undanteknum þeim sem byggðir eru á svonefndri MQB grunnplötu. Fjöldi annarra tegunda geti verið um að ræða einnig, enda fjölmargar aðrar tegundir með samskonar lásatæknibúnað. FÍB blaðið hefur verið í sambandi við danskan blaðaljósmyndara sem varð fyrir því að bíl hans, nýlegum Citroen Cactus, var stolið. Bíllinn hvarf af bílastæði fyrir framan heimili hans á 12v 0,8A 12v 5,5A Fredriksberg en fannst svo þremur dögum síðar þar sem hann stóð í miðri húsagötu í allt öðru hverfi Kaupman27
BÍLAPRÓFUN VIÐTALIÐ BÍLAPRÓFUN FÍFÍBB FORMÚLA 1 HEIMSÓTT
F1:MONZA F1:MONZA ÍTALÍA ÍTALÍA
H
elgina 2. – 4. september síðastliðinn fór fram 14. umferð heimsmeistaramótsins í Formúlu 1 á hinni fornfrægu Monza braut, skammt norðan við Mílanó. Ég sem bílablaðamaður FÍB Blaðsins var viðstaddur keppnina í boði systurfélags FÍB á Ítalíu, ACI, og kann ég þeim bestu þakkir fyrir boðið og höfðinglegar móttökur. Tekið var vel á móti öllum gestum og var setið í einkastúku klúbbsins á besta stað á brautinni, mitt á milli þjónustusvæða liðanna og rásmarksins. Í þokkabót var gefinn passi sem veitti manni leyfi til að ganga um viðgerðarsvæðið hjá bílskúrum liðanna og komast í návígi við bíla og verkfræðinga liðanna rétt áður en kappa ksturinn hófst. Hverja keppnishelgi fara fram fjórar mótaraðir:
Texti & myndir Róbert Már Runólfsson Bílablaðamaður FÍB
28 38
Formula 1, GP2, GP3 og Porsche Supercup. Fróðlegt var sérstaklega að fylgjast með GP1 og GP2 því búast má við að sjá ökumenn sem skara framúr þar aka í Formúlu 1 í náinni framtíð. Síðan síðustu stóru reglubreytingar í formúlunni áttu sér stað árið 2014 hefur ekkert lið átt roð í Mercedes liðið með þá Lewis Hamilton og Nico Rosberg undir stýri. Síðustu tvö tímabil hefur Hamilton staðið uppi sem heimsmeistari; árið 2014 réðust úrslitin ekki fyrr en í síðasta kappakstri tímabilsins á Yas Marina í Abu Dhabi en í fyrra sigraði Hamilton með talsverðum yfirburðum og hafði tryggt sér titilinn, sinn þriðja á ferlinum (fyrst 2008 með McLaren), þegar þrjár umferðir voru eftir af tímabilinu. Reglubreytingarnar voru í meginatriðum þær að vélarnar voru smækkaðar og forþjappaðar. 2,4 lítra V8 vélarnar véku fyrir 1,6 lítra
forþjöppuðum V6 vélum, nú með rafmótor sér til aðstoðar í fyrsta sinn. Í ár er sagan sú sama; Mercedes hafa tekið afgerandi forystu í keppni ökumanna og keppni bílasmiða. Helsta baráttan er þó milli Ferrari og Red Bull um 2. sætið og milli Williams og Force India um 4. sæti bílasmiða. Keppnin í Monza er ávallt sérstök, enda heimavöllur Ferrari og þeirra eldheitu stuðningsmanna sem á ítölsku kallast Tifosi. Brautin hefur verið nefnd „musteri hraðans“ (e. Temple of speed) þar sem ökumenn eru á fullri inngjöf rúmlega 75% hringsins og ná allt að 370 km hámarkshraða á beina kaflanum yfir ráslínuna. Á brautinni reynir mikið á vélarnar og reyna liðin að minnka niðurtog vængjanna umfram aðrar brautir til að lágmarka dragkraft og hámarka endahraða. Eins og við var að búast tóku Mercedes menn fremstu ráslínu í tímatökunni
á laugardeginum; Hamilton fremstur á undan Rosberg. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel og hinn gamalreyndi heimsmeistari frá 2007, Kimi Räikkönen, á Ferrari röðuðu sér í þriðja og fjórða sætið, heimamönnum til mikillar gleði. Á sunnudeginum fór svo sjálfur kappaksturinn fram. Hamilton átti í vandræðum með að finna rétta tengipunktinn á kúplingunni í startinu, fór hægt af stað og datt niður í sjötta sæti. Að öðru leyti var keppnin heldur tíðindalítil og náði Hamilton að sigla fram hjá keppinautunum. Lokaniðurstaðan varð sú að Nico Rosberg landaði sigrinum, Lewis Hamilton hafnaði í öðru sæti og Sebastian Vettel tók þriðja sætið á verðlaunapallinum. Allt ætlaði um koll að keyra að keppni lokinni þegar þúsundir æstra aðdáenda hlupu eftir brautinni með stærðarinnar Ferrari fána og fögnuðu
sínum manni á verðlaunapallinum, jafnvel þótt keppnin sjálf hafi ekki verið ýkja spennandi. Eins og staðan er þegar þessi grein er skrifuð hefur Nico Rosberg 23 stiga forystu á Lewis Hamilton (sigur gefur 25 stig) í heimsmeistarakeppni ökumanna þegar fimm keppnir eru eftir. Daniel Ricciardo á Red Bull er í þriðja sætinu, Kimi Raikkonen í fjórða og Sebastian Vettel í því fimmta. Spennan er því í hámarki enda hafa möguleikar Rosberg á sínum fyrsta heimsmeistaratitli aldrei verið meiri. Það var sannarlega mögnuð lífsreynsla fyrir ævilangan múlumann (Formúlu 1 áhugamann) að fara í fyrsta sinn keppni á sögufrægum stað sem þessum og verð ég hinum ítalska ACI klúbbi ævinlega þakklátur. Róbert Már Runólfsson
29 39
SPARAKSTURSKEPPNIN 2016 BÍLAPRÓFUN FÍB
RENAULT CLIO LENGST Á LÍTRANUM Í SPARAKSTRUSKEPPNI FÍB OG ATLANTSOLÍU
E
ldsneytiskostnaður bílsins sem minnstu eyddi í sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu í lok ágúst sl. reyndist einungis 2.740 krónur á rúmlega 380 km langri keppnisleiðinni Reykjavík-Akureyri. Bíllinn er Renault Clio fólksbíll með 1,5 l dísilvél. Hann er fimm manna fólksbíll og eyddi sem svarar 4,02 lítrum á hundraðið. Ökumaður hans var Sigurður Stefánsson og er hann því nýkrýndur Íslandsmeistari í sparakstri. Sjálf keppnin, hin árlega sparakst-urkeppni FÍB og Atlantsolíu, fór fram 26. ágúst. Þúsund þjala smiðurinn Ómar Ragnarsson ræsti fyrsta bílinn til keppni kl. 9.00 þennan morgun frá eldsneytisstöð Atlantsolíu við Húsgagnahöllina að Bíldshöfða í Reykjavík og síðan hina 18 þátttökubílana hvern af öðrum með tveggja mínútna millibili. Ekið var sem leið lá milli Reykjavíkur og Akureyrar, alls rúmlega 380 kílómetra með hálftíma viðkomu á miðri leið 30
að Gauksmýri í Húnavatnssýslu. Í sérhverjum keppnisbíl var ökuriti frá Arctic Track sem skráði nákvæmlega allar hreyfingar sérhvers keppnisbíls meðan á keppni stóð, þar á meðal hraða hans og staðsetningu hverju sinni. Fyrir tilstilli búnaðarins gat almenningur fylgst með hverjum keppnisbílanna í beinni útsendingu á Netinu meðan á keppni stóð. Samkvæmt keppnisreglum bar ökumönnum að fara í hvívetna eftir umferðarlögum og -reglum að viðlögðum refsistigum sem umreiknuð eru í aukaeldsneytis eyðslu. Þá bar þeim að fara að reglum um hámarkshraða, en jafn-
Sigurður Stefánsson, frá BL, ók Renault Clio með 1.5 lítra díselvél. Eyðslan reyndist 4.02 l á hundraðið.
framt að aka ekki of hægt og vera ekki annarri umferð til trafala. Það þýðir að þeir sem voru bæði of fljótir eða of seinir á leiðinni hlutu refsistig sem umreiknuð voru til eldsneytiseyðslu. Þannig reynir verulega áökuhæfni og forsjálni ökumanna í þessari keppni.
NORSK STJÓRNVÖLD AFNEITA VÆNTANLEGU SÖLUBANNI BENSÍN OG DÍSEL 2025
N
orsk stjórnvöld neita því staðfastlega að til standi að banna sölu bifreiða með brunahreyfla frá og með árinu 2025. Ekkert standi í nýrri samgönguáætlun um að stefnt sé að slíku banni. Talsmaður norska samgönguráðuneytisins segir við Automotive News að annað mál sé að stjórnvöld vilji hvetja bílakaupendur með ýmsum hætti, þar á meðal ívilnunum, til að velja umfram allt umhverfismilda bíla þegar keyptur er nýr bíll. Fjölmiðlar um allan heim greindu frá því fyrr í sumar að þetta bann stæði til. Ýmsir urðu til að fagna því mjög, m.a. Elon Musk eigandi rafbílaframleiðandans Tesla sem talaði um bannið eins og það væri þegar lögfest og lofaði Norðmenn mjög fyrir það. Vissulega var fótur fyrir bannfrétt-
inni. Hann var sá að um það leyti sem verið var að púsla saman nýrri samgönguáætlun fyrir Noreg í byrjun þessa árs, þá ákváðu miðju- og hægri flokkarnir fjórir á þingi að taka undir kröfu ýmissa umhverfissamtaka og einstaklinga og styðja bann við sölu nýrra bíla sem brenna jarðefnaeldsneyti. Flokkarnir fjórir vildu setja texta um slíkt bann inn í samgönguáætlunina, en tillagan um það var felld á þeirri forsendu að tæknin væri þegar á fullri ferð með að útrýma jarðefnaeldsneytisknúnum bílum og engin þörf þess vegna fyrir bann. Talsmaður samgönguráðuneytisins sagði við Automotive News að markmið stjórnvalda sé þó skýrt. Það sé að koma meðal- CO2 útblæstri nýrra bíla niður í 85 grömm pr. km frá og með árinu 2020.
CO2 ÚTBLÁSTUR BÍLA SÍMINNKAR
Ú
tblástur koldíoxíðs frá nýskráðum bílum fer talsvert hratt lækkandi ef marka má tölulegar upplýsingar frá hinni sænsku skráningarstofu. Það sem af er þessu ári er meðalútblástur nýskráðra bíla í Svíþjóð 4,6% minni en hann var á sama tímabili síðasta árs. Ástæðan er einkum sú að hlutur tengiltvinnbíla í nýskráningum hefur vaxið verulega milli áranna. Þá er Svíþjóð einnig það Evrópuland sem notar hlutfallslega mest af lífrænu eldsneyti, aðallega etanól, á bifreiðar og það er talið hafa einhver áhrif. Þetta telja margir Svíar gleðileg tíðindi og mikilvægt skref í átt að því markmiði að kolefnisjafna umferðina í Svíþjóð fyrir árið 2050. Svipuð uppsveifla í sölu tvinn-og tengiltvinnbíla hefur átt sér stað á þessu ári á Íslandi en hlutfallslega ívið minni.
11 GÍRAR OG ÞRJÁR KÚPLINGAR
H
onda hefur fengið einkaleyfi á nýjum gírkassa. Hann skiptir sjálfvirkt milli gíra, bæði upp og niður, er 11 gíra og hefur þrjár kúplingar í stað tveggja eins og algengt er um kassa af þessu tagi. Gírkassar af þessum toga sem skipta sjálfir milli gíra komu fyrst fram í Volkswagen bílum fyrir um áratug og eru orðnir býsna algengir, ekki bara í VW bílum heldur mörgum fleiri. Þeir hafa tvær kúplingar sem fá boð frá tölvu bílsins um að skipta um milli gíranna sem oftast eru frá sjö til níu talsins. Kúplingarnar sjá um að skipta um gír, velja þann næsta og bíða síðan með að tengja hann inn þar til réttu boðin
berast. Nú bætir Honda við þriðju kúplingunni og fjölgar gírum upp í 11. Allt er þetta gert í nafni betri eldsneytis- og orkunýtingar. Þessi gírafjöldi gerir það mögulegt að halda vélinni sem mest á þeim snúningi þar sem hún nýtir eldsneytið best og eyðslan er þar með minnst miðað við hraða og álag hverju sinni. Þriðja kúplingin stuðlar svo að því að gírskiptingarnar verði sem mýkstar og finnist sem allra minnst. 31
BÍLL ÁRSINS Á ÍSLANDI 2017 BÍLAPRÓFUN FÍB
Bíll ársins á Íslandi
- RENAULT TALISMAN HREPPTI HNOSSIÐ
Í
ár voru 36 bílar tilnefndir í valinu á bíl ársins á Íslandi fyrir árið 2017, sex fleiri en í fyrra. Þá var flokkunum fjölgað í sex til að rúma þær gerðir bíla sem ekki höfðu sést í valinu síðustu ár; sportbíla og pallbíla. Þá var flokkur umhverfisvænna bíla lagður niður og dreifast þeir því á hina flokkana. Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) stóð sem fyrr fyrir valinu en í forvalsnefnd sátu fimm bílablaðamenn sem reynsluóku öllum bílum. Fyrir hönd FÍB var Róbert Már Runólfsson líkt og síðustu fimm ár. Nýverið opnaði ný og glæsileg heimasíða sem lesendur eru hvattir til að kynna sér, billarsins.is Þrír bílar komust í úrslit í hverjum flokki og voru þeir teknir til kostanna við ögn erfiðari aðstæður en þeir máttu þola í forprófunum. Jepplingum, jeppum og pallbílum var ekið á þjóðvegum og torfærum vegum, 32
en einnig var pallbílunum ekið um Þúsund vatna leið þar sem reyndi sérstaklega á veghæð, fjórhjóladrif og vaðdýpt. Fólksbílum og sportbílum var svo ekið á glæsilegri og sífellt batnandi akstursbraut Kvartmíluklúbbsins og eru þeim veittar bestu þakkir fyrir afnotin. Lokaniðurstöðurnar urðu þær að bíll ársins á Íslandi 2017 er Renault Talisman. Úrslitin í einstökum flokkum urðu svohljóðandi:
Valnefndin sem valdi bíl ársins á Íslandi 2017: F.v: Róbert Róbertsson, Haraldur Guðjónsson Thors, Guðjón Guðmundsson, Róbert Runólfsson frá FÍB, Jóhannes Reykdal, Njáll Gunnlaugsson og Jón Agnar Ólason.
Özur Lárusson frá Bílgreinasambandinu, Finnur Thorlacius formaður BÍBB og Bjarni Þórarinn Sigurðssosn vörumerkjastjóri Renault, sem tók við stálstýrinu fyrir hönd BL..
Smábílar og minni fólksbílar: 1. sæti: Opel Astra 2. sæti: Renault Megane 3. sæti: Suzuki Baleno
Jepplingar: 1. sæti: Volkswagen Tiguan 2. sæti: Kia Sportage 3. sæti: Honda HRV
Millistærð, stærri fjölskyldubílar og lúxusbílar: Jeppar: 1. sæti: Renault Talisman 1. sæti: Audi Q7 e-tron 2. sæti: Mercedes Benz E-Class 2. sæti: BMW X5 PHEV 3. sæti: Volkswagen Passat GTE 3. sæti: Lexus RX Sportbílar: Pallbílar: 1. sæti: Ford Focus RS 1. sæti: Nissan Navara 2. sæti: Volkswagen GTI Clubsport 2. sæti: Toyota Hilux 3. sæti: Lexus RC 3. sæti: Mitsubishi L200
33
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
VOLKSWAGEN TIGUAN
Þ
egar hinn nýi Volkswagen Tiguan var einungis nýkominn til landsins gerðist ég svo djarfur að spyrja sölustjóra Volkswagen hvort þeir myndu lána hann í minn lengsta reynsluakstur til þessa. Svarið reyndist jákvætt og hófst ferðalagið síðdegis miðvikudaginn 6. júlí. Ferðinni var heitið ásamt æskuvini til Neskaupstaðar á þungarokkshátíðina Eistnaflug. Pakkað var helstu nauðsynjum: Tvær ferðatöskur, svefnpokar, útilegustólar, matur og drykkur. Allur farangur komst í skottið á bílnum og því ekki þörf á að hlaða í aftursætin. Fyrsta kynslóð Tiguan, sem einmitt var valinn bíll ársins á Íslandi 2009, sló heldur betur í gegn. Á átta ára lífskeiði sínu seldist hann í rúmleg 2,6 milljónum eintaka. Nýi bíllinn er byggður á MQB-undirvagninum sem er að finna undir aragrúa bíla VW-samsteypunnar, t.d. VW Golf og Passat, Skoda Octavia og Superb og Audi A3 og TT. Helstu mælanlegu bætingar umfram gamla bílinn eru þær að bíllinn er 30 mm breiðari, 60 mm lengri og veghæðin er komin upp í 20 cm (hækkar um litla fjóra millimetra). Þá er bíllinn 50 kg léttari en áður að jafnaði (með tilliti til sambærilega útbúinna bíla) og hefur dráttargetu upp á 2500 kg. Reynsluakstursbíllinn kom í Highline útfærslu með tveggja lítra 150 hestafla dísilvél ásamt 4MOTION fjórhjóladrifi. Fyrst ber þar að nefna 12,3“ stafrænt mælaborð og 8“ snertiskjá milli framsæta útbúið Íslandskorti, bakkmyndavél, bluetooth-tengingu, Mirror Link og Apple CarPlay til að gera bílinn fullkomna framlengingu af snjallsímanum þínum. Á stafræna mælaborðinu er hægt að skipta um útlit og upplýsingar, t.d. eyðsluupplýsingar, drægni, áttavita, leiðsögukort og umferðarskiltaupplýsingar. Til helstu þægindaauka má telja upp opnanlegt glerþak, bílastæðaaðstoð, 360° myndavélakerfi, hita í sætum og stýri, þriggja svæða miðstöð auk fjölda glasahaldara. Keyrt var til Akureyrar síðla miðvikudags og þaðan til Neskaupstaðar daginn eftir. Fyrstu kynni af bílnum
34
HLJÓÐLÁTUR OG ÞÆGILEGUR
voru allsvipuð og þau í hinum árs gamla VW Passat, sem einmitt var sigurvegari í flokki stærri fólksbíla í vali á bíl ársins í fyrra, og var því umhverfi, stjórntæki og innra útlit áþekkt. Efnisnotkun var að mestu góð; leður- og mjúkir plastfletir hér og þar, en eftir því sem neðar var leitað fór að kræla á hörðum, ódýrum plastflötum. Þegar komið var út fyrir borgarmörkin var skellt í cruise control og þungarokkið sett í gang í öllum átta hátölurum. Eins og farið er að sjást í ívið fleiri nýjum bílum er hraðastillirinn radarstýrður og er með neyðarhemlun og akreinaaðstoð. Það þýðir: Bíllinn heldur settum hraða og hægir á sér í takt við bílinn fyrir framan og heldur sér einnig innan akreinarinnar séu yfirborðslínur skýrar bæði milli akreina og í vegköntum. Sökum þess hve skammarlega litlu opinberu fé er varið í vegaframkvæmdir og yfirborðsmerkingar hér á Íslandi er akreinaaðstoðin aðeins brúkleg á stuttum vegköflum hringvegarins. Bíllinn er vel hljóðeinangraður og lítill
vindgnauður kemur frá hliðarspeglum. Þó var veghljóð frá dekkjum heldur hátt, enda á 19“ felgum og því með lægri prófíl en á 17“ og 18“ felgunum sem fást sem staðalbúnaður. Aksturseiginleikar voru algjörlega á pari við væntingar, sem fyrir voru ansi háar, enda hef ég nú reynsluekið fjölda bíla á þessum undirvagni og skrifað um þá allnokkra. Stýri er létt meðhöndlunar og vegtilfinning takmörkuð en bíllinn er þó almennt þéttur og semur almennt vel við beygjur. Aðlögunarhæf fjöðrunin er mjúk í „Normal“ - stillingu og fer því vel yfir ójöfnur, en skapar heldur mikinn velting í hraðari beygjum. Í „Sport“ - stillingu stífnar fjöðrunin og stýrið upp og heldur vélarsnúningi hærra uppi. Fjórhjóladrifinu er stýrt af snúningshjóli á miðstokki bílsins og má þannig aðlaga aksturseiginleika að mismunandi undirlagi sem ekið er yfir. Þar sem munur á milli akstursstillinga er aldrei það mikill að virkilegur og tilfinnanlegur ánægju- eða afkastamunur eigi sér stað, auk þess sem búast má við því að eigendur noti sjaldan aðra en
þessu ferðalagi sem átti sér að mestu stað á 90 km/klst á hringveginum reyndist meðaleyðslan ekki nema 6,1 lítrar af dísil á hverja 100 kílómetra.
„Normal“ - stillinguna, kysi ég fremur hefðbundna, óstillanlega og ódýrari fjöðrun. „Eco“ - stillingin deyfir svo inngjöf og slær niður afl til að lágmarka eldsneytiseyðslu. Hún virkar fínt á föstum hraða, en þegar kemur að því að taka fram úr eða aka frá aðrein inn á hraðari veg er best að slökkva á þeirri stillingu svo hröðunin sé næg. Sætin reyndust vel. Þegar fyrst var sest upp í bílinn virtust þau ekki eins mjúk og „kósý“ eins og vonast var eftir, en þegar allt kom til alls þá kvartaði hvorugur okkar undan þreytu eða eymslum í baki eftir margra klukkustunda akstur. Þótt farþegar sitji ögn lægra í nýja bílnum en í þeim gamla var útsýni úr bílnum til fyrirmyndar á alla kanta þökk sé stórum rúðum og tiltölulega þunnum burðarbitum. Togið (340 Nm) var nægilegt til að koma bílnum af stað úr kyrrstöðu, en þegar kom að framúrakstri úti á þjóðvegum þótti aflið (150 hö) heldur lítið til að komast úr 80 km/klst fram úr hægfara vegfarendum á sem sneggstan og öruggastan hátt. En í stað gífurlegs afls komu fram merkilegar eyðslutölur: Á
Rýmið fyrir aftursætisfarþega er skemmtilega útfært; nægt pláss er fyrir þrjá fullorðna og fætur þeirra, en sé miðjusætið laust má draga þar fram armpúða með tveimur glasahöldurum. Hurðavasar eru stórir og rúma meðalstór drykkjarílát, rétt eins og í framsætunum. Loks eru borð, eins og er að finna í flugvélum, á sætisbökum framsætanna og má draga enn annan glasahaldara úr þeim. Þau eru að vísu ekki mjög sterkbyggð og verður fara með þau af varfærni. Aftursætin eru á sjálfstæðum sleðum og má færa þau fram til að auka farangursrými eða aftur til að auka fótapláss. Einnig er hægt að halla sætisbökum aftur og er því leikur einn að koma sér þægilega fyrir í fyrsta flokks þægindum. Hin fínasta afþreying og upphitun fyrir Eistnaflugið er að koma sér fyrir í aftursætunum, halla sér aftur, skella drykk í glasahaldarann, snakki á borðið, góna til himins gegnum glerþakið og stýra tónlistinni með símanum í gegnum bluetooth. Farangursrýmið rúmar nú alls 520 lítra með aftursætin í öftustu stöðu, 615 lítra í fremstu stöðu og með einu handtaki má fella niður aftursætin og koma þá fyrir 3.310 litlum kókflöskum fyrir (alls 1.655 lítrar). Á laugardeginum var ekið aðeins um Austrið og komið við á Skriðuklaustri og farið í hádegismat. Leiðin lá þá aftur til baka á Neskaupstað þar sem upphitun fór í gang fyrir aðalnúmerin
á hátíðinni: Opeth og Meshuggah frá Svíþjóð. Á sunnudeginum 10. Júlí var keyrt heim nánast í einum rykk til að ná úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í Frakklandi í sjónvarpinu heima og tók sú ferð rétt rúmar 9 klukkustundir. Fyrst fór að kræla á þreytu og vott af bakverkjum þegar komið var í Borgarnes. Þegar heim var komið höfðu alls 1750 km verið eknir. Fólksvagninn stóð algerlega fyrir sínu og var frábær ferðafélagi. Reynsluaksturinn átti sér stað, eins og kom hér fram, dagana 6. – 11. júlí, en nú í september var bíllinn valinn jepplingur ársins 2017 á Íslandi. Róbert Már Runólfsson
Volkswagen Tiguan Verð: 6.790.000 kr. (Grunnverð fyrir Trendline: 4.990.000 kr) Afköst vélar: 150 hestöfl / 340 Nm Eldsneytisnotkun: 5,7 l/100 km (uppgefin) / 6,2 l/100 km (rauneyðsla) Losun CO2: 149 g/km Hljóðlæti og þægindi í akstri Rými fyrir farþega og farangur Eyðslugrönn vél Vantar örlítið meira afl á hærri snúningi. Efnisnotkun á örfáum stöðum innra rýmis. 35
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
NISSAN NAVARA
GÆÐATILFINNING
Í
ár var í fyrsta sinn sérstakur flokkur fyrir pallbíla í vali á bíl ársins. Þörfin fyrir flokkinn þótti næg þar sem bæði væri ósanngjarnt að bera saman pallbílana, sem í grunninn eru sterkbyggðir og grófir, við lúxusdrekana í jeppaflokknum og einnig vegna þess að þrír nýjir og mikilvægir pallbílar voru komnir til landsins. Þeir eru Toyota Hilux og Mitsubishi L200 og sigurvegarinn í ár; Nissan Navara. Þessi þriðja kynslóð Navara er algjör hástökkvari þegar kemur að framförum og fágun fyrir bíl sem er almennt álitinn vinnutæki. Prufubíllinn kom í fallegum appelsínugul-brúnum lit með stóra krómgrind á pallinum og tveimur ljóskösturum. Þá var skóbúnaðurinn uppfærður úr 31“ upp í 32“ dekk á 18“ álfelgum. Helsti sölupunktur Navara í dag er að samhliða erfiðisvinnunni sem hann á að geta tekist á við er 36
hann þægilegur, siðmenntaður og innréttaður eins og fólksbíll. 7“ snertiskjár með Nissan Connect kerfið sem við þekkjum úr Qashqai og X-Trail var til staðar með Íslandskorti, bakkmyndavél, akstursupplýsingum og fleira. 5“ skjár var svo í mælaborði með ýmsar upplýsingar, svo sem eyðslutölur, drægni og áttavita. Ennfremur kom bíllinn útbúinn tvískiptri loftkælingu, lyklalausu aðgengi og skriðstilli. Þegar hér er komið sögu gefur auga leið að ný kynslóð Navara er ekki einungis iðnaðartæki, heldur einnig eigulegur fjölskyldubíll. Það sem toppar hins vegar alla framangreinda hluti er ný afturfjöðrun bílsins. Í stað blaðfjaðra (e. Leaf springs) sem sáust fyrst á hestakerrum fyrir hundruðum ára skartar bíllinn nú glænýrri „multilink“ fjöðrun með fimm-arma spyrnum auk gorma. Hvers vegna er þetta svo mikilvægt? Þegar pallbíll á blaðfjöðrum með
tóman pall ekur yfir ójöfnur á borð við hraðahindranir gefa fjaðrirnar lítið eftir og bíllinn verður hastur. Ekki fyrr en sæmilegt hlass er komið á pallinn byrja þær raunverulega að fjaðra með tilætluðum hætti og vill maður því oftast vera með pallinn hlaðinn sem hefur að sjálfsögðu með sér í för aukið slit og eldsneytiseyðslu. Nýja fimm-arma fjöðrunin tryggir mjúka og örugga dempun óháð hversu mikið/lítið bíllinn er hlaðinn. Burðargeta bílsins er 1.062 kg og uppgefin dráttargeta 3.500 kg, þ.e. mesta leyfilega þyngd fyrir bíl af þessu tagi (örugglega heldur meiri láti menn reyna á það). Bílnum var reynsluekið um Verslunarmannahelgina 2016 þar sem ferðinni var heitið á mýrarboltann á Ísafirði. Ferðalangarnir voru þrír talsins. Öllum ferðatöskum og öðrum
yfir á Stykkishólm. Með talsverðu umróti tókst okkur þó að velja landleiðina og komumst blessunarlega heil heim. Það eina sem mér þótti vanta í þetta Verslunarmannahelgarævintýri voru raunverulegar torfærur þar sem reyndi almennilega á driflæsingar og 223 mm veghæðina. Það gerðist ekki fyrr en úrslitabílarnir í pallbílaflokknum voru teknir til kostanna á „Þúsundvatnaleið“ á Hellisheiði en eftir sem áður fór Navara létt með það. Nóg er að láta meðfylgjandi myndir tala sínu máli. Fyrir þá sem eru að ráðgera kaup á pallbíl þá er Nissan Navara mjög frambærilegur valkostur. Róbert Már Runólfsson farangri var komið fyrir í lokuðum plastpokum til að verjast veðri og ryki og allt klabbið bundið niður á opinn pallinn með hjálp færanlegra festinga á rennum á pallinum. Þó hefðu mátt vera festingar á botninum. Ekið var beint til Ísafjarðar frá Reykjavík á föstudegi og þaðan ferðast um Vestfirðina næstu daga. Skemmst er frá því að segja að vel fór um alla farþega, jafnvel í aftursætinu þrátt fyrir að eins og í flestum pallbílum séu þau helst til bein. Til að gera aftursætin ívið skárri hefði auðveldlega mátt bæta við armpúða í miðjusætið og glasahaldara eða tveimur. Bíllinn var merkilega hljóðlátur en lét hins vegar vel í sér heyra við mikla inngjöf þegar forþjappa og millikælir sungu sinn söng. Reyndar tók hann á sig talsverðan vind með opinn pallinn og lóðrétta kastarana á þakinu, sem
mætti auðveldlega laga með loki á pallinum. Sökum þessa og þar sem stærri dekk voru undir bílnum en ella reyndist meðaleyðsla bílsins, sem fór að mestu fram á þjóðvegum, rúmir 10 lítrar á hundraðið. Nýja fjöðrunin stóð sig með miklum sóma, var mjúk og fyrirgefandi og naut sín vel á bungum og ójöfnum Vestfjarðarvega. Það er þó ekki að segja að hann hafi ekið alveg eins og skutbíll eða jepplingur, en enginn pallbíll (sem ég hef a.m.k. ekið) hefur komist jafn nærri því. Leiðsögukerfið virkaði að mestu leyti vel en átti þó erfitt með að reikna út hversu langan tíma tæki að aka vissar vegalengdir þótt auðvelt væri að finna áfangastað. Þá reyndist þrjóska kerfisins oft mikil og vildi, þegar stefnan var sett heim til Reykjavíkur, umfram allt senda okkur beinustu leið í ferjuna Baldur í Brjánslæk og sigla
Nissan Navara Acenta+ 4WD CVT Verð: 7.090.000 kr. (Grunnverð fyrir Visia 4WD: 5.690.000 kr) Afköst vélar: 190 hestöfl / 450 Nm Eldsneytisnotkun: 7 l/100 km (uppgefin) / 10,3 l/100 km (rauneyðsla) Losun CO2: 183 g/km Afturfjöðrun! Gæðatilfinning. Færni í torfærum. Aðgengilegur og ríkulega búinn sem fjölskyldubíll.
Festimöguleikar á palli Óspennandi aðstaða í aftursætum
37
BÍLAPRÓFUN BÍLAPRÓFUN FÍBFÍB
Opel Astra Innovation
O
pel Astra hefur raðað inn verðlaunum og viðurkenningum síðan hann var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt í September 2015. Bíll ársins í Evrópu 2016, Gullna Stýrið 2016 á vegum þýsku miðlanna Auto Bild og Bild am Sonntag, fimm stjörnur í árekstrarprófi Euro NCAP og nú síðast, bíll ársins 2017 í flokki smábíla og minni fólksbíla að mati Bandalags íslenskra bílablaðamanna. Nýja Astran, sem er komin á sína fimmtu kynslóð, er alls ekki ólík fyrirrennaranum í útliti. Þegar hins vegar er litið er til tæknilegra nýjunga er auðséð að bíllinn er gjörbreyttur. Ódýrasta útfærslan, með 1,0 lítra forþjappaðri bensínvél og fimm gíra beinskiptingu kostar frá 2.990.000 kr en prufubíllinn kom í næstdýrustu útfærslunni; Innovation með 1,6 lítra forþjappaðri dísilvél, og sex gíra beinskiptingu og kostar þannig 3.890.000 kr. Það er merkilegt að sjá hvað þessi litli millistærðarfólksbíll fyrir hinn „meðal einstakling“ býður upp á mikinn tæknibúnað, bæði í þágu öryggis og þæginda. IntelliLink margmiðlunarkerfi með 7“ snertiskjá, bakkmyndavél og fjarlægðarskynjara er að finna í betur búnum útfærslum, en þó vantar leiðsögukerfi með Íslandskorti. Í öryggisdeildinni er að finna akreinavara, árekstrarvara og umverðamerkjaaðstoð ásamt bílastæðaaðstoð. Framsætin, sem voru upphituð og rafstýrð, föðmuðu farþega þétt og örugglega að sér og stuðluðu að vellíðan undir stýri. Öll stjórntæki voru innan seilingar
38
og takkarnir veittu akkúrat næga mótstöðu til að undirstrika þýska gæðasmíði sem bíllinn hefur verið svo ítrekað auglýstur fyrir. Yfirbragð innra rýmis einkennist því af gæðum og notagildi. Verst er þó hve margmiðlunarkerfið og aksturstölvan í mælaborðinu eru flókin í notkun við fyrstu (og önnur) kynni. Hér vantar upp á einfaldleikann eins og er að finna í sambærilegu kerfi frá t.d. Volkswagen samsteypunni. Eftir smá stund kemst maður þó upp á lagið með IntelliLink kerfið og fær öllum sínum skipunum framfylgt. Aftursætisfarþegar fá hvor sinn sætahitara og USB-tengi og armpúða í miðjusæti. Fótapláss er gott og höfuðrými nægt fyrir rúmlega meðalháa einstaklinga. Farangursrýmið er djúpt og rúmt, en hár kantur gerir það að verkum að erfitt getur reynst að hlaða þungum hlutum aftur í bílinn. Aftursætin eru niðurfellanleg („4020-40“), en vænn hryggur myndast þar sem sætin falla niður og verður gólfið því aldrei fyllilega flatt. Með rúmmál upp á 370 lítra með sætin uppi og 1.210 lítra með þau niðri verður þó að segjast að plássið er með ágætum og vel það. Í akstri koma svo bestu eiginleikar Opel Astra fram. Lifandi og sterk dísilvélin togar 300 Nm og skilar 110 hestöflum. Upptak er snöggt og óvænt, gírskiptingar hæfilega mjúkar og slaglengd gírstangar hæfilega stutt til að vekja gleði og ánægju ökumanns. Stýrið er næmt og svara framhjólin minnstu hreyfingum stýrisins á fyrirsjáanlegan hátt og eflist þ.a.l. sjálfstraustið við harðari akstur. Astran kom virkilega á óvart í
krefjandi brautarakstri á akstursbraut Kvartmíluklúbbsins og lét vel af stjórn eftir að hafa verið „refsað“ af öllum meðlimum dómnefndar. Undirstýring var í lágmarki og henti skriðvörnin bílnum frekar í smávægilega yfirstýringu ef eitthvað var þegar mest var lagt á hann í hröðum, kröppum beygjum. Með þennan ofurmetnaðarfulla akstur til hliðsjónar er bílnum því fullkomlega treystandi úti á hlykkjóttum þjóðvegum Íslands og ótakmörkuðum þýskum Autobahnhraðbrautum. Með samspil aragrúa tæknilegra nýjunga, hljóðláts og þægilegs innra rýmis og traustvekjandi aksturseiginleika er því Opel Astra vel að öllum sínum titlum kominn. Róbert Már Runólfsson Opel Astra Innovation 1,6 dísil, Verð: 3.890.000 kr. (Grunnverð fyrir Essentia: 2.990.000 kr) Afköst vélar: 110 hestöfl / 300 Nm Eldsneytisnotkun: 3,7 l/100 km (uppgefin) / 5,9 l/100 km (rauneyðsla) Losun CO2: 97 g/km Beinskiptur
Aksturseiginileikar við flestar aðstæðu Tæknilegur öryggis- og þægindabúnaður Gæðatilfinning
Flókið margmiðlunarkerfi Skortur á leiðsögukerfi Farangursrýmið ekki nógu flatt og aðgengilegt
Ford Focus RS
S
portbílaflokkur í vali á bíl ársins á Íslandi var með í valinu í ár í fyrsta sinn síðan 2007 og ber því að fagna. Segir það þó meira en nokkur orð um hagvöxt og efnahag sem er í mikilli uppsveiflu í þjóðfélaginu þessa stundina. Ford Focus RS sigraði flokkinn í ár með naumindum, en hinn harðkjarna Volkswagen Golf GTI Clubsport kom honum næstur. Þar sem RS bíllinn er afar sjaldgæfur, þ.e. aðeins eitt eintak var á landinu þegar valið fór fram og var sá bíll þá þegar seldur, er ekki margt hægt að segja um eiginleika bílsins fyrir utan þá frammistöðu sem hann sýndi á akstursbraut Kvartmíluklúbbsins. Ekki náðist að reynsluaka bílnum í „almennri umferð“ og reyna því af alvöru á t.d. bensínseyðslu og þægindi í lengri ferðalögum. Að svo sögðu er bíllinn vissulega ennþá Focus og hefur því feiknastórt skott og rými fyrir alla farþega er hið ágætasta. Í (kapp)akstri var Focus RS algjört villidýr, enda situr í vélarrúminu mjög forþjöppuð 2,3 lítra fjögurra strokka EcoBoost-vél sem skilar heilum 350 hestöflum til allra fjögurra hjólanna í gegnum 6-gíra beinskiptingu! Sjaldséð ánægja í heimi sem er að verða yfirtekinn af CVT og „dual-clutch“ sjálfskiptingum. Ólíkt fjórhjóladrifs-kerfi á borð við Haldex eins og t.d. Volkswagen notar í Golf R, sem sendir afl að mestu til framhjólanna þar til afturhjólin „þurfa“ afl, þá notar Ford „Twinster“-drifkerfi, hannað af breska fyrirtækinu GKN. Þetta
kerfi notar rafstýrða kúplingsdiska við hvort afturhjól og getur því hermt eftir eiginleikum læsanlegs „limited-slip“ mismunadrifs eða sent mismikið afl til hjólanna með vægisdreifingu (e. Torque-vectoring). Vægisdreifingin getur sent allt að 70% aflsins til afturhjólanna og ennfremur allt að 100% af því afli til eins hjóls sé þess þörf! Akstursstillingar eru fjórar: Normal, Sport, Track og Drift. Sú síðastnefnda varð fræg um leið og Ford tilkynnti að bíllinn kæmi með þessa stillingu því aldrei hefur verið boðið upp á þessa stillingu í neinum bíl áður – allavega ekki að nafninu til. Stillingin virkar þannig að dempararnir og stýring er sett í mýkstu stöðu, bremsun á innra framhjóli í beygju verður ögn „aggressívari“ til að koma í veg fyrir undirstýringu, skriðvörnin sett nánast niður í núll og meiri hluti aflsins er sendur til afturhjólanna. Á þennan hátt er merkilega auðvelt að skrensa á þessum fjórhjóladrifna bíl og halda skriðinu á nokkuð þægilegan hátt til lengri tíma. Fyrir hina mest alhliða upplifun er best að hafa bílinn í Sport-stillingu. Þá verður inngjöfin skörp, stýrið stífnar og hægt er að slengja bílnum frá kyrrstöðu í 100 km/klst á einungis 4,7 sekúndum. Gripið er vart trúlegt og var hinn mesti vandi að finna takmörk gripsins. Eðlisávísnunin grípur inn í og segir skynseminni að bremsa fyrr, slá af inngjöfinni fyrr... Jafnvel þótt kvartmílubrautin væri rennandi blaut hélt Focusinn áfram að grípa í malbikið. 350 mm Brembo bremsudiskar að framan og 302 mm
að aftan eru sannarlega risastórir, hvað þá þegar hugsað er til þess að þeir prýða „bara“ Focus, en þökk sé þeim er hemlunarmátturinn svo yfirþyrmandi að halda mætti að kjötið myndi rifna af beinunum. Það hvein í forþjöppunni og hnefastóru útblástursrörin hrópuðu kröftuglega við inngjöf en ropuðu eins og örgustu dónar þegar slegið var af og óbrennt eldsneyti sprautaðist á sjóðheit rörin innanverð. Verkfræðingar Ford lögðu einmitt mikið upp úr hljóðblöndun vélarinnar og útblásturskerfisins og leyfðu sér viljandi að búa til þessi fallegu óhljóð. Ford Focus RS er frábært leiktæki í alla staði og í raun merkilegt verkfræðiundur frá A til Ö. En þegar kemur að því að slaka á og hætta að leika sér ber að hafa í huga að þetta er enn fimm dyra Ford Focus með stórt skott og nægt sætapláss fyrir alla fjölskylduna. Róbert Már Runólfsson Ford Focus RS Verð: Frá 6.990.000 kr Þyngd: 1.569 kg Afköst vélar 350 hestöfl / 440 Nm Hröðun frá 0 – 100 km/klst: 4,7 sekúndur Hámarkshraði: 265 km/klst Eldsneytisnotkun: 7,7 l/100 km (uppgefin) Losun CO2: 175 g/km 39
BÍLL ÁRSINS Á ÍSLANDI 2017 BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
RENAULT TALISMAN
R
enault Talisman er bíll ársins 2017 á Íslandi að mati Bandalags íslenskra bílablaðamanna (BÍBB). Dómarar hrifust af lágu grunnverði, ríkulegum staðal- og aukabúnaði, sparneytni, útliti, mjúkum aksturseiginleikum... Já, í raun bara öllu. Fyrir þá sem ekki þekkja Talisman þá er þetta ný tegund frá Renault sem leysir hinn þjóðþekkta Laguna af hólmi. Bíllinn er afar fagur ásýndum og gerði Cosmosblái liturinn á reynsluakstursbílnum gæfumuninn. Hann kom í dýrustu Dynamic útfærslunni, sjálfskiptur með 1600 cc dísilvél sem skilar 160 hestöflum og 380 Nm af togi. Notandi 40
stýrir nýjustu útfærslu R-Link kerfisins með 8,7“ snertiskjá sem inniheldur meðal annars leiðsögukerfi með Íslandskorti. Skjárinn er þægilegur í notkun og eru flestar skipanir auðfundnar og auðframkvæmanlegar. Þá er einnig að finna í bílnum akreinavara og vegaskiltisnema sem staðalbúnað í ódýrari útfærslum og bakkmyndavél og bílastæðaaðstoð í þeim dýrari. Erfitt er að fjalla um Talisman án þess að minnast á mögulega besta búnaðinn sem er að finna í Dynamic útfærslunni, la pièce de résistance; nudd í framsætum! Hægt er að velja um þrjár gerðir af nuddi og ofan á það má stilla styrk og hraða
nuddsins. Búnaður sem þessi er alveg ómissandi eftir að hafa komist í tæri við hann, hvort sem það er á löngum ferðalögum eða einfaldlega það að sitja í umferðarteppu á Kringlumýrarbrautinni. Þá þarf að leita í a.m.k. þrefalt dýrari lúxusbíla til að finna sambærilegan búnað. Á meðan reynsluakstri stóð var ekið upp í Hvalfjörð og hamborgari snæddur í Ferstikluskálanum. Að því loknu var snúið við og ekið aftur til Reykjavíkur með nudd í bakinu allan tímann og vildi maður helst ekki fara úr bílnum þegar heim var komið. Renault fór heldur djarfa leið með Talisman að því leyti að leggja áherslu
stýringu á afturhjólum til viðbótar. Ekki gafst kostur á að prófa bíl með þeim búnaði. Eftir reynsluakstur (ekki á kvartmílubrautinni, nota bene) sagði aksturstölva bílsins að meðaleyðslan hafi verið 5,6 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri og dæmi svo hver fyrir sig hvort það séu ásættanlegar tölur.
á þægindi í akstri fremur en sportleika. Fjöðrun er mjúk og rennur bíllinn sem búðingur yfir malbikið án þess að gera of mikið mál úr því. Aflið er sæmilegt, en þar sem akstursupplifunin er svo afslöppuð finnur ökumaður síður þörf til að gefa í og láta reyna á þolmörk dekkjanna. Það sem kom þó helst á óvart þegar bílnum var ekið ásamt öðrum úrslitabílum á akstursbraut Kvartmíluklúbbsins var hversu fágaður bíllinn var í hörðum akstri og virtist ekki gefa afturdrifnum Mercedes Benz E-Class og sportlegum VW Passat GTE mikið eftir í sífelldum, hröðum stefnubreytingum. Þá er frátalinn aukabúnaðurinn „4Control“ sem inniheldur stillanlega dempara og
Til viðbótar við áðurnefnd unaðsleg nuddsæti er feiknarstórt farangursrými, alls 572 lítrar, og heill hellingur af fótarými fyrir aftursætisfarþega. Því er svo sem við að búast í bíl sem mælist 4.866 mm á lengd og 1.870 mm á breidd. Tvær USB innstungur eru svo í miðjustokk fyrir aftursætin og geta því allir verið með fullhlaðna síma á ferðalaginu. Gólfið í skottinu er flatt og enginn kantur sem þarf að lyfta yfir. Festipunktar eru einnig í skottinu og má festa þar t.d. innkaupapoka og annað lauslegt. Með einu handtaki má svo fella niður aftursætin og stækka þá plássið upp í 1681 lítra. Efnisnoktun einkennist af sléttum, möttum plastflötum, burstuðu stáli, leðri og viði umhverfis allt innra rýmið. Stillanleg stemningslýsing gaf aukinheldur stílhreint yfirbragð. Allt í allt – mjög ánægjulegur staður til að verja klukkustundum saman úti á vegum.
Grunnverð fyrir beinskiptan 110 hestafla bíl er 4.190.000 kr en Dynamic útfærslan með 160 hestafla vélinni kostar 5.290.000 kr. Til viðbótar var þó aukabúnaður upp á 380.000 kr sem innihélt heilleðruð sæti með rafmagni og kælingu. Í raun er ekki þörf á að fleiri orðum um þennan framúrskarandi bíl. Allur þessi lúxus, fágun og sparneytni í ekki dýrari bíl. Afgerandi sigurvegari í valinu á bíl ársins 2017 á Íslandi. Róbert Már Runólfsson Renault Talisman Dynamic EDC Verð: 5.670.000 kr eins og prófaður (Grunnverð: 4.190.000 kr) Afköst vélar: 160 hestöfl / 380 Nm Eldsneytisnotkun: 4,5 l/100 km (uppgefin) / 5,6 l/100 km (rauneyðsla) Losun CO2: 120 g/km Falleg hönnun Fáguð og þýð akstursupplifun. Rými fyrir farþega og farangur Nuddsæti (!!!) Skortur á fjórhjóladrifi
41
BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR
ATHUGASEMDUM Í ÁRSSKOÐUN BÍLA Í SVÍÞJÓÐ FÆKKAR
árið 2014 og 31,2 prósent árið 2011. Í Svíþjóð koma árlega 3,7 miilljón bílar til skoðunar í skoðunarstöðvum landsins. Þar, eins og hér á landi, telst árleg öryggisskoðun bifreiða mikið öryggismál enda er í henni gengið úr skugga um að bílarnir séu í lagi og umferðarhæfir. Talsmaður sænsku umferðarstofunnar segir við bílatímaritið Vi Bilägare að tölfræðin sýni að ástand bíla í umferðinni fari batnandi sem sé gleðilegt. 10 algengstu ágallar skoðaðra bíla 2015 eru þessir:
T
ölulegar upplýsingar sem safnast upp hjá bifreiðaskoðunarstöðvum íSvíþjóð sýna batnandi ástand bílaflotans. Athugasemdum sem skoðunarmenn gera við ástand bílanna fer nefnilega fækkandi ár frá ári. Gera má ráð fyrir svipuðu hér á landi, ekki síst vegna þess að bílaflotinn hefur verið að yngjast og
endurnýjun hans nú nálægt því sem telja má eðlilega. Árið 2015 voru gerðar athugasemdir við 27,2 prósent bíla sem komu til árlegrar skoðunar íSvíþjóð og var gert að mæta aftur í endurskoðun eftir lagfæringar. Til samanburðar fengu 28,2 prósent bíla slíkar athugasemdir
NÝR CITROEN LÚXUSBÍLL
Á
bílasýningunni í París fyrir skömmu sýndi Citroen frumgerð nýs lúxusbíls. Bíll þessi nefnist Cxperience og er svona forsmekkur þess sem leysa skal lúxusbílinn C 5 af hólmi þegar þar að kemur. Frumgerðin sem sýnd var í París var um margt sérstæður í útliti og að gerð, mjög rúmgóður og minnti dálítið á ID/DS bílinn sem fyrst kom fram um miðjan sjötta áratug sl. aldar og var gerólíkur öðrum bílum þess tíma að flestu eða öllu leyti. Hvort Cxperience verði slíkur tímamótavagn sem ID/DS bíllinn var á svo eftir að koma í ljós. En hann verður í það minnsta ekki með hinni einstöku gas-vökvafjöðrun sem var í DS bílnum og arftaka hans CX á árunum 1974-1991, heldur með 42
nýju hátæknilegu fjöðrunarkerfi sem sagt er skila svipuðum eiginleikum og gamla gas-vökvakerfið gerði en vera ódýrara og einfaldara í framleiðslu og viðhaldi. Cxperience hugmyndarbíllinn er 4,85 m langur. Lengd
milli
1. Stefnuljós: Óvirk að hluta eða alveg 2. Aðalljós: Lágan geisla vantar 3. Stöðuhemill: Virkar lítt eða ekki 4. Spindilkúlur: Slitnir 5. Stýrisendar: Slitnir 6. Númersljós 7. Hemlar 8. Útblásturskerfi 9. Hemlarör 10. Stjórntölva öxla er þrír metrar sem er svipað og í Mercedes S lúxusbílunum. Allur frágangur bílsins miðast við það að skapa sem mest þægindi og gera alla umgengni við bílinn sem einfaldastan og bílinn sem hljóðlátastan í akstri og að hann sé áreiðanlegur, léttur í viðhaldi og sparneytinn. Hugmyndarbíllinn er –ekki óvænt – tengiltvinnbíll. Bensínvél (ca. 200 hö) er í vélarrýminu fremst í bílnum en við afturhjólin er ca 100 ha. rafmótor sem knýr þau. Drægi bílsins á rafmagni einu saman er sagt 60 km. Orkurýmd rafhlaðanna er 13 kílóWattstundir.
VOLVO AMAZON SEXTUGUR
Á
þessu hausti eru 60 ár frá því að fyrsti Volvo Amazon bíllinn rann fullskapaður af færibandinu í Lundby-bílaverksmiðju Volvo í Gautaborg. 14 árum síðar, þann 3. júlí 1970, rann síðasti Amazoninn af færibandinu. Þá höfðu samtals 667.791 Volvo Amazon bílar verið byggðir. Í heimalandinu Svíþjóð seldust rúmlega 297.000 Amazon bílar þau 14 ár sem framleiðslan stóð. Af þeim eru 24.282 enn á skrá. Haustið 1953 kall-aði stjórn Volvo verkfræðinginn og hönnuðinn Jan Wilsgaard til fundar við sig um það að hanna nýjan bíl, arftaka hins vel heppnaða PV bíls. Fyrirmæli stjórnarinnar voru þau að skapa nýjan og ekki síður vel heppnaðan bíl en hinn gamla og gamaldags PV 444/544. Í nýja bílinn átti fyrst og fremst að nýta sem mest af þeim tæknihlutum og gamli bíllinn var samsettur úr. Wilsgaard, sem velt hafði málinu fyrir sér um tíma, sýndi stjórninni ýmsar hugmyndir, teikningar og skissur sem hann hafði meðferðis og viðraði sínar hugmyndir um nýjan bíl við stjórnarmennina. Þeir tóku hugmyndunum heldur
fálega að því sagt er og þóttu þær allt of framúrstefnulegar og allt of fallegar. Bílar ættu alls ekki að vera eins og einhverjar glamúrgellur heldur traustlegir og endilega ljótir, því samasemmerki væri milli ljótleika og traustleika. Hönnuðurinn var ekki sammála þessu og sú málamiðlun varð ofan á að halda áfram að framleiða PV-bílana sam-hliða nýja bílnum –
Amazoninum. Þannig töldu menn sig lágmarka áhættu vegna fallega bílsins. Gang-verkið í þeim nýja var hinsvegar að mestu það sama - sama 60 ha B16A vélin, sami þriggja gíra gírkassinn og sama drifið, sömu fjaðrir og demparar – semsagt –gamalt vín á nýjum belg.
Fljótt kom í ljós að kaupendum féll nýi bíllinn betur í geð. Hann var mun rúmbetri og útlitið nútímalegra samanborið við gömlu ,,Kryppuna” sem var eins og smækkuð eftirmynd af Ford 1946. Amazon náði því fljótt forskoti í sölu sem jókst svo jafnt og þétt, ekki síst með endurbótum og uppfærslum eins og nýju B18 vélinni árið 1958 sem fyrst var 75 hö, þá 85 og loks 90 hö. Með þeirri síðastnefndu varð Amazoninn með sprækari bílum í sínum flokki og salan tók kipp. Amazon varð einnig forystubíll í öryggi: Hann var með fyrstu bílum með diskahemla á framhjólum og með tvöfalt hemlavökvakerfi og sá allra fyrsti með þriggja punkta öryggisbeltum. Slík belti eru nú talin vera sú bílatengda uppfinning sem flestum mannslífum hefur forðað frá bana. Volvo setti á fót fyrstu slysarannsóknanefndina sem sögur fara af hjá bílaframleiðendum. Hún rannsakaði raunveruleg slys og afleiðingar þeirra og á niðurstöðunum voru síðan gerðar endurbætur á bílunum jafnt og þétt. Æ síðan hefur Volvo verið lang fremsti bílaframleiðandi veraldar í öryggismálum.
10 prósent svindlvéla VW hafa verið lagfærðar
Það gengur frekar hægt að uppfæra milljónir dísilvéla Volkswagen og koma þeim í löglegt lag – vélarnar sem voru forritaðar með hugbúnaði sem fegraði stórkostlega útblásturs- og mengunargildi vélanna – nema þegar bílarnir voru mengunarmældir inni á verkstæðum og skoðunarstöðvum. Þýska umferðarstofan KBA hefur samþykkt áætlanir um slíka uppfærslu á 5,1 milljón VW, Audi, Skoda og Seatbílum, en samtals munu bílarnir vera 8,5 milljónir í Evrópu. Af þessum 8,5 milljón bílum hafa 10 prósent verið lagfærðir með góðum árangri að sögn Manfred Bort sem hefur yfirumsjón með verkefninu af hálfu Volkswagen samsteypunnar. Þetta segir hann í samtali við Reuters. Hann segir að ætlunin sé að ljúka viðgerð á flestum þessum 8,5 milljón bílum fyrir áramót. Þeir sem útaf munu þá standa verði kláraðir 2017. 43
BÍLAPRÓFUN FÍB GAMALT OG NÝTT
- Bílar koma stundum við sögu í dægurlagatextum en ef til vill sjaldnar þó en ætla mætti.
BÍLAR Í DÆGURLAGATEXTUM
B
ílar koma stundum við sögu í dægurlagatextum en ef til vill sjaldnar þó en ætla mætti. Söngvaskáldið Megas – Magnús Þór Jónsson er sagður hafa á ofanverðri síðustu öld gengið fram á lotlegt bílflak í nágrenni Reykjavíkurflugvallar. Þeim hughrifum sem sýnin vakti lýsir hann á fyrstu plötu sinni svona: Gamli skrjóðurinn gengni móðurinn geymir minning kæra Stíflað púströrið stolið teinhjólið stólgormar búkinn særa. Gamli skrjóðurinn gengni móðurinn geymir hróðurinn. Í upphafi sjöunda áratugarins söng Þorvaldur Halldórsson með hljómsveitinni Pónik um sambúð manns og farlama bíls í laginu Bíllinn minn og ég: Búmm sjaka búmm, búmm búm,. nú við ökum úr bænum. Búmm sjaka búmm, búmm búmm, upp í sveit í einum grænum. Gatan er öll í holum og þá ek ég þér hægar gangverkið allt í molum og ég tek á þér vægar. Það er enginn sem getur skilið hvað ég elska þig mikið og þegar við komum aftur skal ég þvo af þér rykið. 44
Búmm sjaka búmm, búmm, búmm, elsku bíllinn minn blái. Búmm sjaka búmm, búmm, búmm, þó brotnar legur þig hrjái, kominn að niðurlotum já, þú kemst þetta af vana gírkassinn er í brotum, já, þú ert dreginn af krana. Loftur Guðmundsson samdi fjölda ágætra texta fyrir Hauk Morthens og fleiri um miðja síðustu öld. Í þeim var sagt frá breyttum samgönguháttum og flutningum þegar bílar höfðu leyst hestinn af hólmi. Bændur tóku að aka á jeppum út um allar götur og beisluðu aldrei klárinn sinn. Unga fólkið fór klætt rokkbuxum í Rússajeppum á réttarballið og hann Sveinn ók í hlað að Brú -á litlum bíl og Lóu bað, aka með sér upp í sveit. Þá varð hún feimin og rjóð og undirleit. En aðalkvennagullið var auðvitað mjólkurbílstjórinn, hann Bjössi. Um hann orti Loftur: Hver ekur eins og ljón með aðra hönd á stýri? Bjössi á mjólkurbílnum, Bjössi á mjólkurbílnum. Hver stígur bensínið í botn á fyrsta gíri? Bjössi á mjólkurbílnum, hann Bjössi kvennagull. Við brúsapallinn bíður hans mær, Hæ, Bjössi keyptirðu þetta í gær? Og Bjössi hlær, ertu öldungis ær, alveg gleymdi ég því. Þér fer svo vel að vera svona æst en vertu nú stillt ég man þetta næst.
Einn góðan koss,svo getum við sæst á ný. Hann Bjössi kann á bil og svanna tökin. Við brúsapallinn fyrirgefst mörg sökin. En það var kaupakonan hans Gísla í Gröf sem setti hormónana á fulla suðu í karlmönnunum í sveitinni. Um það kvað Loftur og Haukur Morthens söng: Kaupakonan hans Gísla í Gröf, er glettin og hýr á brá. Hver bóndason þar á bæjunum, er brennandi af ástarþrá. Öll sveitin í háspennu hlerar, ef hringt er að Gröf síðla dags og Jói eða Jón heyrist pískra, kem í jeppanum eftir þér strax. Kaupakonan hans Gísla í Gröf, gerir þá allveg frá. Já kaupakonan hans Gísla í Gröf, þeir sofa ekki svei mér þá. Hann Siggi á Farmalnum syngur, um svása mær háfleygan brag og Geir sem er roskinn og reyndur, hann rakar sig tvisvar á dag. En kaupakonan hans Gísla í Gröf reyndist hvikult hnoss og sum ævintýri bændasonanna með henni enduðu víst úti í mýri, jafnvel lítill jeppakoss.
VANRÆKT VEGAKERFI HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Þ
jóðvegakerfi landsins er í bágu ástandi eftir áralangan viðhaldsskort. Í kjölfar batnandi efnahags eftir hrun og gríðarlegs fjölda ferðamanna sem lagt hefur leiðir sínar til Íslands undanfarin fá ár og stóraukinnar umferðar á vegunum er þörf skjótra úrbóta ef vegir víða eiga ekki hreinlega að eyðileggjast. Það er flestum ljóst. En ennþá er lausnarorðið einkavæðing eða einkaframkvæmd á þessum eða hinum vegarkaflanum? Hver stjórnmálasamtökin og hver stjórnmálamaðurinn um annan þveran kveður sönginn um einkaframkvæmd í vegbótum. Síðsumars hóf innanríkisráðherra, sem fyrst nú á síðustu þingdögunum í október tókst loks að koma samgönguáætlun 2015 til 2018 í gegnum þingið, að kyrja möntruna um að hlutafélög sem taka eiga framkvæmdafé að láni á ábyrgð ríkissjóðs en rukka svo vegfarendur um vegatolla í ofanálag við öll þau milljarða gjöld sem lögð eru á umferðina. Gamla hugmyndin frá 2010 sem svokallaðir félagshyggjuflokkar á alþingi stóðu að um að einkavæða helstu samgönguleiðirnar út frá höfuðborgarsvæðinu og girða það innan vegatollmúrs, er tekin að ganga aftur enn einu sinni. Þá mótmælti FÍB því kröftuglega að þessi eignaupptaka á eigum almennings – þjóðvegunum sem þá átti öllu að bjarga - ætti sér stað. FÍB
efndi undirskriftasöfnunar á www. fib.is gegn þessum áformum. Hún var aldrei auglýst sérstaklega en viðbrögð almennings voru mjög sterk og skýr: Þegar söfnuninni lauk þann 11. janúar 2011 eftir einungis eina viku höfðu 41.500 atkvæðisbærra landsmanna mótmælt einkavæðingarhugmyndunum með því að undirrita eftirfarandi yfirlýsingu: -Ég mótmæli hugmynd um vegatolla í ofanálag við ofurháa eldsneytis- og bifreiðaskatta! Það voru ekki síst íbúar landsvæða sem fyrirhugaðir vegatollar kæmu einna þyngst niður á, sem brugðust harðast við. Þannig skrifuðu 32% kosningabærra manna á Selfossi undir mótmælin, 42% í Hveragerði, 31% í Reykjanesbæ, 28% í Grindavík, 25% í Mosfellsbæ, 38% á Kjalarnesi og 24% á Akranesi. Í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu var hlutfallið að jafnaði tæplega 20% - og allur þessi fjöldi á aðeins einni viku. Þessi sterku viðbrögð almennings eru einsdæmi og sýndu glöggt hug fólks. Rétt er að minna á þetta nú þegar sömu hugmyndirnar eru fimm árum seinna teknar að ganga ljósum lögum í aðdraganda alþingiskosninganna nú. Gera má ráð fyrir því að á þessu ári innheimti ríkissjóður um 70 milljarða króna af bifreiðum og umferð. Væri helmingnum af því skattfé varið til við-halds og nýframkvæmda
í þjóðvega-kerfinu, væri ekki ástæða til að kvarta. Hugmyndir sumra pólitíkusa ganga út á að einkavæða valda lykilkafla þjóðvegakerfisins og innheimta vegatolla fyrir akstur um þá í ofanálag við fyrrnefnda 70 milljarða. Út frá umferðartölum og markaðsforsendum eru þessir vegir nær eingöngu á suðvesturhorni landsins. Þessar hugmyndir ganga í berhögg við vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Það að taka nánast af handahófi einn og einn fjölfarinn kafla af samhangandi og samstæðu þjóðvegakerfi á Íslandi út fyrir sviga og gera gjaldskyldan. Það er brot á grundvallarhugmyndinni um þjóðvegi ríkisins – samfélagsins. Hugmyndin um að sérstakt eignarfélag, hvaða nafni sem nefnist, ehf, ohf, sem byggi, eigi og reki með gjaldtöku valda lykilkafla í þjóðvegakerfi Íslands er ósættanleg mótsögn við grundvallarhugmyndina um samhangandi þjóðvegakerfi ríkisins í þágu allra byggða, í þágu allra landsmanna jafnt. Ef ætlunin er að breyta þessu, þá þarf að spyrja þjóðina fyrst. Það hefur ekki verið gert. Samgöngur á landi á Íslandi byggjast á því að samfélagið eigi vegina og hafi af þeim allan veg og vanda. Vegakerfið er þjóðvegakerfi. Ríkið hefur byggt það upp og rekur það á samfélagslegum og hagfræðilegum forsendum. Þar sem landið er eyja er þjóðvegakerfið lokað á þann hátt að það tengist vegakerfum annarra ríkja að mjög litlu leyti, einna helst með vikulegum ferjusiglingum milli Seyðisfjarðar og Norður-Jótlands.
MATT LEBLANC RÁÐINN AÐALKYNNIR TOPGEAR NÆSTU TVÖ ÁRIN. BBC hefur samið við bandaríska leikarann Matt LeBlanc um að hann verði aðalstjórnandi og -kynnir tveggja nýrra raða sem gerðar verða tvö næstu árin í bílatengdu skemmtiþáttaröðinni TopGear. Matt LeBlanc var einn þeirra sem ráðnir voru að TopGear eftir að Jeremy Clarkson var rekinn og meðstjórnendur hans, þeir James May og Richard Hammond hættu í kjölfar þess. Matt LeBlanc hefur komið vel fyrir sem kynnir, verið hófstilltur í framkomu og launfyndinn. Nú hefur honum verið falin forystan a.m.k. næstu tvö árin. Með honum verða kynnar þeir Chris Harris and Rory Reid. Reglulegir gestir verða síðan Eddie Jordan og þýska kappakstursstjarnan Sabine Schmitz og svo auðvitað huldumaðurinn The Stig. 45
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL
VÉLSMIÐJAN Á ÞINGEYRI
V
élsmiðjan á Þingeyri er sérlega áhugaverður staður að heimsækja. Hún var formlega stofnuð þann 13. janúar 1913 af Guðmundi J. Sigurðssyni vélvirkjameistara. Guðmundur hafði áður numið vélvirkjun, fyrst á Þingeyri en síðan í Danmörku 1904-1906. Hann sneri heim aftur 1906 og hafði þá meðferðis handsnúna súluborvél og fótstiginn rennibekk. Þetta urðu fyrstu vélarnar í vélsmiðjunni og þær er enn að finna þar og eru auðvitað í fullkomnu lagi eins og allar aðrar vélar og búnaður smiðjunnar þótt dagleg starfsemi fari ekki lengur fram. Saga vélsmiðjunnar er afar merkileg. Hún hefst við upphaf vélknúinna fiskveiða og spannar m.a. tímabil tveggja heimsstyrjalda (1914-1918 og 1939-1945). Á allra fyrstu árum smiðjunnar var ekkert rafmagn á Þingeyri. Þá var smiðjan lýst með gasluktum. En umsvifin jukust hratt og ekki dugði lengur að notast eingöngu við hand- og fótknúnar vélar. Því var keypt
46
dísilrafstöð og einn stór rafmótor knúði eftir það og alla tíð síðan vélar smiðjunnar eins og borvélar, fræsara, sagir og rennibekki. Jafnframt varð smiðjan um tíma einskonar rafveita þorpsins og seldi út raf-
magn í húsin í kring. En svo kom rafmagn til Þingeyrar og um leið lagðist dísilrafstöðin af og stóri rafmótorinn sem knúði allar vélar
smiðjunnar fékk sinn straum frá rafveitu staðarins. Dísilrafstöðin varð óþörf. Einn rafmótor snýr öllu Allar vélarnar voru og eru knúnar af þessum eina rafmótor. Hann er tengdur við einn langan öxul og hver vél síðan tengd öxlinum með stórum flatreimum sem lengstum voru gerðar af nautaleðri. Þannig var knýbúnaður vélsmiðja oftast í vélsmiðjum almennt, hér á Íslandi sem annarsstaðar. Þessi knýbúnaður hafði þann kost að hávaðinn í smiðjunni var miklu minni en í smiðjum þar sem sérhver vél hefur sinn eigin rafmótor. Þetta heyrðist glöggt þegar leiðsögumaður FÍB blaðsins í smiðjunni á Þingeyri setti vélarnar í gang eina af annarri. Aðeins léttur niður heyrðist, enginn hávær hvinur ískur eða óhljóð. Vélaframleiðsla Árið 1920 bættist málmsteypa við starfsemi smiðjunnar á Þing-
eyri og við það jukust umsvifin mjög. Starfsemin fólst ekki lengur nánast einvörðungu í viðgerðum og endurbótum heldur í allskonar nýsmíði og framleiðslu á vélum og vélahlutum af öllu mögulegu tagi. Þarna voru steypt hedd og stimplar í skipavélar, stórar sem smáar, hvers konar tannhjól og gírhjól sem fljótlega þróaðist í hreina framleiðslu á skipsskrúfum, dragnótaspilum, línuspilum, togspilum, keðjustýrisvélum, sjódælum, olíudrifkerfum, og fjölmörgu öðru. Upp úr 1930 stundaði mikill fjöldi breskra togara veiðar út af Vestfjörðum og ef eitthvað bilaði var leitað til vélsmiðjunnar á Þingeyri sem var orðin alþjóðlega þekkt fyrir vönduð vinnubrögð og yfirburða þekkingu og kunnáttu. Stríðsárin 1939-1945 voru sérstakur annatími í nýsmiði og vélabyggingum, fyrir íslenska fiskiskipaflotann enda evrópskur iðnaður upptekinn af hergagnaframleiðslu og allar samgöngur og millilandaflutningar og sjósókn Breta og annarra Evrópuþjóða auk þess útilokuð. Eftir stríðið komu svo bresku togararnir aftur á miðin og þá var mikið að gera í viðgerðum á þeim. Allt upp í 150 skip komu árlega til Þingeyrar og gríðarlega mikið var að gera í smiðjunni allt þar til landhelgin var færð út í 200 mílur. Framleiðsla á spilum og varahlutum hélt þó áfram en dróst smátt og smátt saman eftir því sem innflutningur jókst. Málmsteyp-an dróst við þetta mjög saman en lagðist þó ekki alveg af þar sem
viðgerðir á landbúnaðartækjum og bifreiðum bættust við. Í dag er vélsmiðjan á Þingeyri fyrst og fremst safn um mikla kunnáttu og verksvit. Hún er í fullkomnu lagi og tilbúin til starfsem hvenær sem er, ef verkefni fást og mannskapur til að vinna þau. Vélsmiðjan er einstök og sannarlega heimsóknar virði og þeir leiðsögumenn sem leiða ferðamenn
um hana eru fagmenn sem vita sínu viti. Rauðu stykkinn sem ungi maðurinn virðir fyrir sér eru mót að ýmsum hlutum sem gerðir voru í málmsteypu smiðjunnar. Á stóru myndinni má sjá skrúfstykkin. Á litlu myndinni neðst til hægri eru enn gamlar vélar fyrir utan smiðjuna. Sumar biðu viðgerðar meðan aðrar voru bræddar upp og nýjar vélar og búnaður steyptar úr þeim.
47
BÍLAPRÓFUN FÍB FERÐALÖG
Á SUMARFERÐALAGI UM NORÐANVERÐA VESTFIRÐI
V
estfirðirnir eru einstæður hluti Íslands og sannarlega heimsóknar virði. Það gerði blm. FÍB blaðsins sl. sumar og ferðalagið var upplifun. Allt lagðist á eitt með að gera förina ógleymanlega – landslagið, höfuðstaður landshlutans Ísafjörður, sjávarþorpin Hnífsdalur, Bolungarvík, Þingeyri og Flateyri og fólkið. Við héldum til á Flateyri og gerðum þaðan út leiðangra til nærliggjandi staða. Leiðin frá Reykjavík lá til Hólmavíkur og yfir Steingrímsfjarðarheiði. Þar ofan frá heiðinni blasir Ísafjarðardjúpið við umkringt háum fjöllum og mörgum mislöngum fjörðum sem þræða þarf fyrir hvern af öðrum á leiðinni til Ísafjarðar. Það tekur sinn tíma og nærri lætur að á Hólmavík sé leiðin frá Reykjavík til Ísafjarðar hálfnuð –í það minnsta í tíma. Þegar útsýnið opnast yfir Djúpið ofan af heiðinni er eins og að vera kominn til annars lands. Allt er öðruvísi en annarsstaðar á Íslandi – birtan, landslagið, fjöllin, firðirnir, sjórinn meira að segja. Þegar svo komið er til Ísafjarðar er 48
beygt til vinstri og eftir stuttan akstur er ekið inn í jarðgöngin. Inni í þeim miðjum, eða svo, er tekinn vinstri leggurinn og við enda hans blasir Önundarfjörðurinn við. Við ökum langleiðina niður að flæðarmálinu, beygjum til hægri til Flateyrar og finnum
út, fiskur verkaður og meira en nóg vinna fyrir alla sem vildu. Svo var settur kvóti á veiðarnar til útgerða og skipa og eftir fyrri veiðireynslu. Síðan varð kvótinn framseljanlegur sem þýddi að óveiddur fiskur gat gengið kaupum og sölum. Og nú er svo komið að nánast enginn kvóti er lengur á Flateyri né heldur á Þingeyri við Dýrafjörðinn og útgerð og fiskvinnsla orðin svipur hjá sjón. Á Flateyri og reyndar líka á Þingeyri steinsnar frá sést glöggt að þorpin hafa séð sinn fífil fegri. Íbúum fækkar og fækkar, mörg húsa standa auð. Yfir Flateyri hvílir auk þess enn þungur og næstum áþreifanlegur skuggi hinna
auðveldlega Brynjukot þar sem við eigum pantaða gistingu næstu dagana. Á Flateyri eru gjöful fiskimið skammt undan og þarna óx upp sjávarþorp þaðan sem var lengi gert
Þau Hekla Sif og Gabríel voru sumargestir á Flateyri sl. sumar. Hekla fékk nýtt hjól í afmlisgjöf og hjólaði um þorpið til að bjóða íbúum til afmælisveislu sinnar á Vagninum..
ægilegu snjóflóða haustið 1995 þegar 19 manns lét lífið. Af stuttri viðdvöl á Flateyri finnst strax að
hafa eignast einhver húsanna sem vandalausra sem alls engar rætur eiga staðið hafa tóm um lengri eða á staðnum. Veitingahúsið Vagninn skemmri tíma og eru að gera þau upp er hin mannlega samskiptamiðstöð af myndarskap til að dvelja í þeim um þar sem finna má samhug fólksins skemmri eða127 lengri tíma og jafnvel l brunahreyfill, hö. Geely Emií þorpinu, bæði heimafólks og leigja þau út þess í milli, því að vaxandi grand 7 hefur ekki verið á almennum aðkomufólks. Þarna hittast fjöldi innlends og erlends ferðafólks heimamenn og gestirnir sem bílamarkaði hér til þessa, en það gæti kemur sumartímann og sækist kum, Starfsfólk Brimborgar annast breyst því um að áætlað verð er hagstætt ýmist eru brottfluttir eftir gistingu enda hefur Flateyri um bílana og heldur þeim við meðan miðað við stærð og búnað. Sem venj- og Flateyringar, afkomendur aðrirbensínknúinn sambærilegirbíll staðir á tilrauninni stendur. Egill Jóhannsson ulegur gætiverulegt hann þeirra, ættingjar eða aðdráttarafl og millj. jarðgöngin frá Ísafirði forstjóri Brimborgar sagði í samtali við kostað rétt um 3,8 kr. en sem bíll bara ósköp venjulegir FÍB blaðið að bílarnir, sem koma frá knúinn orku og þá ánog til yfir í endurnýjanlegri Önundarfjörð og Dýrafjörð ferðamenn, (beninnKína, eru búnir brunahreyflum aðflutningsgjalda VSK gæti verðið að Suðureyrar eruogslík samgöngubót lendir og erlendir. sínvélum) sem sérstaklega hafa verið verið rétt er rúmlega millj. kr. óhætt að telja2,8 þau meginforsendu aðlagaðar því að ganga fyrir hreinu áframhaldandi búsetu, atvinnu og Sumir gestanna metanóli. Í Kína væri komin talsverð almennrar þjónustu á þessu svæði. reynsla á notkun metanóls sem eldsneyti á bíla og forvitnilegt verði að sjá hvernig reynslan verður hér á landi. Geely er kínverskur bílaframleiðandi. Á Vesturlöndum er Geely best þekkt sem eigandi Volvo fólksbílaframleiðsl-unnar í Svíþjóð og víðar, en eftir Afmælisveisla Heklu Sifjar á Vagninum að Geely keypti Volvo af Ford komin á fullt. Stóra myndin á hinni bls. er hafa Volvobílar sjaldan eða aldrei af gamla skólahúsinu að Núpi í Dýrafirði. verið vinsælli og eru sem aldrei fyrr í Myndin hér að ofan er úr skrúðgarðinum að sérflokki fyrir öryggi. Núpi sem séra Sigtryggur skólastjóri prestur Geely Emigrand 7 er fólksbíll af og skólastjóri á Núpi stofnaði til snemma á stallbaksgerð. ívið stærri og pláss20. öld. meiri en VW Golf. Lengdin er 4,63 m og breiddin er 1,79 m. Vélin er 1,8
6 metanólbílum reynsluekið á Íslandi í eitt ár
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL
Hafinn er hér á landi 12 mánaða reynsluakstur á sex fólksbílum af gerðinni Geely Emigrand 7. Það sem er sérstakt við þetta er það að bílarnir verða knúnir hreinu metanóli sem framleitt verður í verksmiðju Carbon
mörgum finnst Recycling vænt um staðinn. Hann á sér marga International velunnara bæði meðal brottfluttraí Svarts-engi afkomenda við Grindavík. Flateyringa, þeirra, BílaumboðiðenBrimborg flytur inn skyldmenna líka meðal margra bílana sex og sér um þessa tilraun sem nú er verið að hleypa af stok-
28
49
HJÓLBARÐAR AFSLÆTTIR TIL FÉLAGSMANNA
Félagmenn! Útsala á ferðabókum! Skúlagata 19, Rvk. Margir titlar í boði Verð aðeins 500 kr
HÆGT ER AÐ SKOÐA ALLA AFSLÆTTI TIL FÉLAGSMANNA INNÁ FIB.IS
50
BARITO AKSTURSSÓLGLERAUGU Fullkomin polaroide sólgleraugu með UV-400 gleri, sem gefur betri sýn í bæði sterku sólarljósi og skýjuðu veðri. Glerið fangar útfjólubláu geislana og tekur skyggingar í burtu.Frábær gleraugu á frábæru verði. Hulstur og klútur fylgir með. Varan fæst hjá FÍB að Skúlagötu 19 Opið frá kl. 8.15 - 16.30 virka daga. Póstsendum um land allt samdægurs.
Verð til félagsmanna
kr. 5.748.-
Almennt verð kr. 7.185.-
SNJALLSÍMASTANDUR SNJALLSÍMASTANDUR
VIÐVÖRUNARÞRÍHYRNINGUR VIÐVÖRUNARÞRÍHYRNINGUR
Stillanlegurfyrir fyrirhinar hinarýmsu ýmsustærðir stærðir Stillanlegur snjallsíma.Með sniðmót fyrir snjallsíma.Með sniðmót fyrir mismunandimismunandi hleðslutæki.hleðslutæki.Örugg sogskál. 360 snúningur. Létt að setja upp. Örugggráðu sogskál. Verð til félagsmanna 360 gráðu snúningur. kr. 4.448.Létt að setja upp.
Viðvörunarþríhyrningur Viðvörunarþríhyrningur ECE ECE R27 R27 vottaður vottaður Hentugt geymslubox. Hentugt geymslubox.
VerðVerð til félagsmanna til félagsmanna
2.256.kr. kr. 2.256.-
Almennt verð kr. 5.560.-
Almennt verð kr. 2.820.Almennt verð kr. 2.820.-
Verð til félagsmanna
kr. 4.448.-
Almennt verð kr. 5.560.-
Snowvel snjóskóflan er búin til úr hágæða áli, er fislétt,sterk og auðvelt að koma fyrir.
2 mögulegar lengdarstillingar 64 - 82 sm. Hentugt klikk-system Þyngd: 600 grömm Lítil nett taska: 24 sm x 39 sm Tilvalin í bílinn.
Loftdæla Bón Hard Wax 250ml Kr. 5.360 Kr.1.112
Öryggisvesti
Rúðuskafa Bónklútar rauðir
Startkaplar Vaskaskinnslíki
Hálkugormar
Dráttartaug
Kr. 672
Yfir 120 titlar Kr. 4.616 Kr. 2000
Kr.Kr.6.008 787
Kr. 2.136
Felguhreinsir Kr.1.557
Plast & gúmmígel Kr.1.624
Snjóskófla Kr. 4.360
FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS
51 49
SHOW YOUR CARD SYC afsláttarklúbbur bílaklúbba! NÝTT
Innanlands
Jóhannes Karlsson 250467-4999 018887
Snjallforrit fyrir bæði Apple og Android
Félagsmenn FÍB hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbi í heimi. Show your Card! er landamæralaus afsláttarklúbbur bílaklúbba. Tugþúsundir staða út um allan heim sem gefa afslátt. Ef þú ætlar að leigja bíl í fríinu, kaupa hótelgistingu, fara í dýragarðinn, vatnagarðinn eða á söfn, kannaðu Show your Card! afsláttinn inni á fib.is áður en þú ferð og ferðakostnaðurinn minnkar. Mundu eftir FÍB félagsskírteininu það opnar þér aðgang.
10% 15%
Jarðböðin við Mývatn 20%
15%
20% FÍB - Show your Card afsláttur af aðgangi . Tveggja manna herbergi með
handlaugheimasíða kr. 9.900.Ný og aðgengilegri
Show Your Card Kannaðu málið inná fib.is
www.hertz.is/fib
10-15%
Hvalfjarðargöng kr. 700 20% Miðarnir fást einungis á skrifstofu FÍB, Skúlagötu 19 Sendum um land allt - s. 414-9999
15%
15%
52 52
SHOW YOUR CARD ERLENDIS
Matché
118 veitingastaðir í 6 löndum, 10% afsl. af mat og drykk
www.marche-restaurants.com
10-20%
PortAventura Park 15% SyC! afsl. af dagsmiðum (1 klst. keyrsla frá Barcelona)
Tivoli Friheden skemmtigarður í Árósum 20% afsl. af aðgöngumiðum. www.friheden.dk
15.00 DKK afsláttur af aðgangsverði 29.00 DKK afsláttur af “Ride Pass”
Hard Rock Cafe
KYNNTU KYNNTU ÞÉR SHOW CARD ÞÉRYOUR SHOW NÁNAR THE LONDON PASS YOUR CARD WWW.FIB.IS 10% afsláttur af Londaon Pass korti. NÁNAR! Fleiri afsláttarkjör fyrir félagsmenn FÍB.
10% af öllu nema áfengum drykkjum 32 staðir í Evrópu, 60 í USA www.hardrock.com
Nánari upplýsingar á: www.londonpass.com
www.fib.is 53 53
BIFREIÐAÞJÓNUSTA
Skemmuvegi 44m Kópavogi · www.bilarogtjon.is Avis bílaleigubílar á staðnum
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
5454
Aðalskoðun hf. Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði Sími 590 6900 www.adalskodun.is Skeifan 5 (hjá vínbúðinni) sími 590 6930 Grjóthálsi 10 (við vesturlandsveg) sími 590 6940 Skemmuvegur 6, Kópavogi sími 590 6935 www.adalskodun.is Frumherji hf. Hestshálsi 6-8, Reykjavík Skeifunni (Grensásvegi 7) Reykjavík Gylfaflöt 19, Grafarvogi, Dalvegi 22, Kópavogi Garðatorgi, Garðabæ, Sími 570 9090 frumherji.is Dalshraun, Hafnarfjörður, Sími 570 9217 Tékkland Borgartún 24, 105 Reykjavík Holtagarðar, Reykjavík s. 414-9914 Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður s. 414-9912 Dalsbaut 1, Akureyri sími. 414-9916
BÍLAHÚS
Bergstaðir - Bergstaðastræti 6, 101 Rvk. Kolaport - við Seðlabanka Íslands, 101 Rvk. Ráðhúskjallari - við Ráðhús Reykjav. 101 Rvk. Stjörnuport - Laugavegi 94, 101 Rvk. Traðarkot - Hverfisgötu 20, 101 Rvk. Vesturgata - Vesturgötu 7, 101 Rvk. Vitatorg - Skúlagötu/Vitastíg, 101 Rvk. Nánari upplýsingar www.bilastaedasjodur.is
BÍLARÉTTING, SPRAUTUN,TJÓNAMAT
Arctic trucks ehf. Klettshálsi 3, 110 Reykjavík Sími 540 4900, www.arctictrucks.is A.B. skálinn, Gagnheiði 11, Selfossi s. 482 2200 Bifreiðaverkst.Kaupf. Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími. 455 4570 fax.455 4571 Bílamálun Egilsstöðum ehf. Fagradalsbraut 21 Sími 471 2005, 700 Egilsstöðum, Bílamálunin Lakkhúsið, Smiðjuvegi 48 200 Kópavogi, Sími 567-0790, www.lakkhusid.is Bílar og tjón ehf.Skemmuvegi 44m Bleik gata 200 Kópavogi, Sími 578 5070, www.bilarogtjon.is Bílasprautun og réttingar Hjartar Smiðjuvegi 56 rauð gata, Kópavogi, S.587 9020, rettingar.is Bliki- Bílamálun og réttingar ehf, Smiðjuvegi 38 gul gata, 200 Kópavogi,S.567 4477 Bílverk BÁ ehf, Gagnheiði 3, 800 Selfossi Sími 482 2224, Fax 482 2354 www.bilverkba.is 5 stjörnu vottað, bilverkba@simnet.is Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík S. 567 8686 Lakkskemman ehf.Skemmuvegi 30, blá gata 200 Kópavogi, Sími 557 4540 Réttingaverk ehf,Hamarshöfða10,RvkS.5674343 Réttingaþjónustan ehf, Smiðjuvegi 40, gull gata Kópavogi, s. 557 6333, rettingathjounstan@itn.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Réttur – bílaréttingar, Funahöfða 17, 108 Reykjavík s. 587 6350, F 587 6351, rettur.net Smáréttingar ehf. – Réttingaþjónusta Smiðjuvegi 36 gul gata, 200 Kópavogi S.588 4644 Víkur-ós ehf, Bæjarflöt 6, 112 Reykjavík Sími 587 7760, Fax 587 7761, www.vikuros.is
BÍLASÖLUR
Bílver ehf. Innnesvegi 1, Akranesi s.431 1985, Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 471 1436, Nýir og notaðir
BÍLAVARAHLUTIR
AB Varahlutir, Bíldshöfða 18, Rvk, s.567 6020 E.T. Einar og Tryggvi, Klettagarðar 11 Rvk, S. 568 1580, F. 568 0844 www.et.is Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík Sími 520 8000, www.stilling.is Volvovarahlutir.is Parts4u.is, Febest.is Varahlutaverslunin Kistufell ehf, Brautarholti
105 Reykjavík, Sími 562 2104, www.kistufell.is Mekonomen, Smiðsbúð 2, 210 Garðabær, Símli 527 2300, www.mekonomen.is Ljósboginn ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík Sími 553 1244, ljosboginn@simnet.is
BÍLAUMBOÐ
Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sími: 590 2100, www.askja.is Bernhard, Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík Sími: 520 1100, www.bernhard.is Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8, 110 Reykjavík Sími: 5157000 www.brimborg.is BL, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 525 8000 www.bl.is Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, 110 Reykjavík Sími: 590 2000, www.benni.is Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Toyota, Kauptún, Garðabær Sími: 570 5070, www.toyotakauptuni.is Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími: 568-5100, www.suzuki.is
ALMENN BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, rauð gata, Kópavogi Sími 557 2540, Verkstæði/smurþjónusta, bilhusid.is Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d, rauð gata 200 Kópavogi, Sími 557 6400, Fax 557 7258 Bifreiðaverkstæðið Baugsbót, Frostagötu 1b, 603 Akureyri S.462 7033, Metanísetningar Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar Smiðjuvegi 22, græn gata, 200 Kópavogi Sími 567 7360, Fax 557 7374, www.bfo.is Bifreiðaverkstæði Grafarvogs ehf, Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík, Sími 577 4477, Þjón. Bílabúð Benna Bifreiðaverkstæði Jónasar, Skemmuvegi 46, 200 Kópavogur, sími 557 1430. www.jonasar.is Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri Iðjuvöllum 5, 880 Kirkjubæjarklaustri S.487 4630, Gsm 820 4515, Verkstæði, hjólbarðaverkstæði, Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, S.455 4570 F.455 4571 Bifreiðaverkstæðið Pardus. Suðurbraut 565 Hofsósi, S.453 7380 pardus@pardusehf.is, Bílanes – Grandanes ehf. Bygggörðum 8, 170 Seltjarnarnesi S.561 1190, GSM 698 2212. Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, Almennar viðgerðir. Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 4705070, www.bva.is Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílaþjónusta Péturs ehf, Vallholti 17, 800 Selfossi Sími 482 2050, Alhliða viðgerðaverkstæði, smurstöð Bíljöfur bifreiðaverkstæði ehf. - biljofur.is Smiðjuvegi 34, 200 Kópavogi, Sími 544 5151 Bílstál ehf, Askalind 3, Kópavogi Sími 564 4632 Bílver ehf, Innnesvegi 1,300 Akranesi S. 431 1985 Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Jeppasmiðjan ehf,Ljónsstöðum Árborg 801 Selfossi Sími 482 2858, Fax 482 1004, Varahlutir/breytingar Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi S. 564 1268, Þjónusta fyrir Renault, Hyundai, Land Rover, BMW Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Vélastilling sf, Auðbrekku 16, 200 Kópavogur
Sími 554 3140, Fax 564 4460, velastilling@simnet.is Vélrás Bifreiða- og vélaverkstæði velras@velras.is Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Sími 577 6670
BÍLSKÚRSHURÐIR OG OPNARAR
BIFREIÐAÞJÓNUSTA
BIFREIÐASKOÐUN
Glófaxi ehf. blikksmiðja, Ármúla 42, 108 Reykjavík Sími 581 2900, Fax 588 8336, www.glofaxi.is Héðinn, Gjáhellu 4, Hafnarfjörður, Sími 5692100 Bílskúrshurðaþjónustan, sími 892 7285
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐVAR Bílaþvottastöðin Löður ehf, Sími 544 4540, www.lodur.is
HJÓLBARÐAR OG ÞJÓNUSTA
Barðinn Skútuvogi 2, Reykjavík, s. 568-3080. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími 455 4570 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, bilvogur@simnet.is Dekkjahöllin, Skeifan 5, 108 Reykjavík, S.581 3002 Draupnisgata 5, 600 Akureyri S. 462 3002 Þverklettar 1, sími 471 2002, www.dekkjahollin.is Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hátúni 2a 105 Reykjavík, Sími 551 5508 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Gylfaflöt 3 112 Reykjavík , Sími 567 4468 Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Sólning hf, Smiðjuvegi 68-70, 200 Kópavogi Sími 544-5000, www.solning.is Njarðvík, Fitjabraut 12, s.421-1399 Selfossi, Austurvegi 52, s,482-2722 Hafnarfjörður, Rauðhellu 11, s. 568-2035 Hafnarfjörður, Hjallahraun 4, s. 565-2121 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is
PÚSTÞJÓNUSTA
Kvikk Þjónustan, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Drangahrauni 1, Hafnarfirði, s. 520 0600 kvikk.is
KERRUR OG DRÁTTARBEISLI
Vagnar og þjónusta,Tunguhálsi 10, Rvk s.567 3440
VERSLUN, LÁSASMIÐIR OG ÞJÓNUSTA
Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík Sími 567 2330, Fax 567 3844, bilasmidurinn.is Neyðarþjónustan lykla- og lásasmiður Skútuvogur 11, Reykjavík, s.5108888 Neyð.8006000
RAFGEYMAR OG ÞJÓNUSTA
Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17, 220 Hafnarfirði Sími 565 4060, www.rafgeymar.is Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík S. 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Skorri ehf, Bíldshöfða 12, 110 Reykjavík Sími 577 1515, Fax 577 1517, www.skorri.is
SJÁLFSKIPTIVIÐGERÐIR
Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi,S. 564 1268
SMURSTÖÐVAR
Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 14 00, bilaattan@bilaattan.is Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Smurstöðin Fosshálsi, Fosshálsi 1, Rvk s.567 3545 Smurstöðin Akranesi, Smiðjuvöllum 2, S.431 2445 Stimpill ehf, Akralind 9, Kópavogi, Sími 564 1268 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is
VINNUVÉLAR
Vélfang ehf, Gylfaflöt 32, 112 Reykjavík Sími 580-8200, velfang@velfang.is www.velfang.is
55
Númer 1 í Þú Þýskalandi gerir ekki
betri kaup!
Liqui Moly hefur verið valið í fjórum sjálfstæðum könnunum í Þýskalandi, besta vörumerkið í olíuvörum fyrir bíla. Nútíma vélar þurfa bestu smurog hreinsiefnin til þess hámarka nýtinguna á eldsneytinu og * lágmarka mengandi skv. FÍBútblástur samkvæmt ríkjandi mengunarstöðlum.
Áberandi gott
Winter i'cept
Ipike W419
Kornadekk
Liqui Moly sérhæfir sig í efnavörum fyrir bíla og framleiðir öll smurefni samkvæmt stöðlum *samkvæmt dekkjaprófun bílaframleiðenda. haustið 2014
Notaðu Liqui Moly efnavörur og þú hámarkar virkni vélarinnar en lágmarkar eyðsluna.
Er ekki kominn tími til að nota Liqui Moly á bílinn þinn? Skútuvogi 2, Rvk
Sími 568 3080
Fitjabraut 12, Njarðvík
Austurvegi 52, Selfossi
Smiðjuvegi 68-72, Kóp
Hjallahrauni 4, Hfj
– Síðan 1941 –
– Síðan 1941 – 56 56
Skútuvogi 2, Rvk
Sími 568 3080
Smiðjuvegi 68-72, Kóp
Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík
Austurvegi 52, Selfossi
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is