2.tbl. 2017
F É L A G
Í S L E N S K R A
B I F R E I Ð A E I G E N D A
SETBERGSSKÓLI HLÝTUR GANGBRAUTINA 2017
FÓÐRUM EKKI
MILLILIÐI Á KOSTNAÐ SKATTBORGARA VETRARDEKKJA
KÖNNUN FÍB 2017/2018
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR & SAMGÖNGUMÁLIN RAFBÍLAVÆÐINGIN Bílaprófun
LAND ROVER DISCOVERY
1
2
3
facebook.com/enneinn ENNEMM / SÍA / NM84026
www.n1.is
Við dekkum veturinn af öryggi Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
Michelin X-ICE Hljóðlát og naglalaus vetrardekk Ný APS gúmmíblanda tryggir gott grip í kulda og hita Frábærir aksturseiginleikar
Michelin X-ICE NORTH 10% styttri hemlunarvegalengd á ís Færri naglar en meira grip Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu
Michelin Alpin 5 Endingargóð naglalaus vetrardekk Sérhönnuð fyrir fjölskyldu- og borgarbíla Mikið skorið og stefnuvirkt mynstur sem veitir frábært grip við erfiðar aðstæður
Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu
4
4401318 440-1322 440-1326 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi Réttarhvammi Akureyri
440-1378 440-1374 440-1372 440-1394 440-1433
Opið mán – fös laugardaga www.n1.is
kl. 08-18 kl. 09-13
Alltaf til staðar
Skattaglaðir ráðamenn Stór hluti íslenskra stjórnmálamanna virðist fyrst og fremst líta á fjölskyldubílinn sem endalausa uppsprettu skattgreiðslna. Í ár renna ríflega 70 milljarðar króna í ríkissjóð úr vasa bíleigenda og aðeins á að verja tæplega 30% af þessum skatttekjum til viðhalds og nýbyggingar vega. ÚTGEFANDI FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA
Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson HÖFUNDAR EFNIS: Jón Kristján Sigurðsson Róbert Már Runólfsson Runólfur Ólafsson Stefán Ásgrímsson
Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 18.000
FÍB Blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 7.800.Auglýsingar / umbrot Bogi Auðarson Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið
FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA
Skúlagata 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Fax: 414-9998 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is
Framundan eru kosningar til Alþingis en rétt áður en skammlíf ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar féll var lagt fram frumvarp til fjárlaga fyrir komandi ár. Athygli vakti að í frumvarpinu var lagt til að hækka skatta á bíla og umferð um 9 milljarða króna 2018 samanborið við fjárlögin fyrir 2017. Mesti tekjuaukinn átti að koma af hækkun skatta á eldsneyti eða tæpir 6 milljarðar króna. Í umræðu um fjárlagafrumvarpið voru sterkir fulltrúar stjórnarandstöðunnar ekki andsnúnir hækkun skatta á eldsneyti. Svona mikil skattahækkun á afnot almennings af bílum hefur ekki sést í áratugi. Þrátt fyrir áformaða skattahækkun reyndi fjármálaráðherra að slá ryki í augu almennings og kalla aðgerðina jöfnun skatta. Í frumvarpinu var lagt til að hækka skatta á notkun dísil- og bensínbíla en skattarnir áttu að hækka meira á dísilbíla en bensínbíla, það er ekki jöfnunaraðgerð heldur skattahækkun. Hefðu þessar ráðstafanir náð fram að ganga hefði hver dísilolíulítri hækkað um tæpar 22 krónur og hver bensínlítri um tæpar 9 krónur. Reksturskostnaður fjölskyldubíla hefði hækkað um 15 til 60 þúsund krónur ári miðað við venjulega notkun. Um 60% af útsöluverði bensínlítra er skattur í ríkissjóð
verst niður á þeim fjölskyldum sem hafa minni tekjur og þeim sem búa á jaðarsvæðum á landsbyggðinni og þurfa að sækja alla þjónustu um langan veg. Þrátt fyrir tillögur um stóraukna skatta á notkun fjölskyldubílsins í fjárlagafrumvarpinu þá var ekki gert ráð fyrir auknu framlagi úr ríkissjóði 2018 til viðhalds og uppbyggingar grotnandi vegakerfis landsins. Í lok september lagði starfshópur samgönguráðherra fram hugmyndir um vegatolla til uppbyggingar helstu vega til og frá höfuðborgarsvæðinu. Vegatollar eru teknir upp úr vösum þeirra sömu og borga bílaskattana. Til stóð að stórauka notkunarkatta af bílum og að auki var vilji til að koma á nýjum bílasköttum, vegtollum. Hugmyndir um aukna skatta á eldsneyti, vegatolla og vegamál almennt eru ofarlega á baugi í aðdraganda kosninga og það verður fróðlegt að sjá hvaða línur verða lagðar hjá nýrri ríkisstjórn eftir kosningar. FÍB eru frjáls hagsmunasamtök vegfarenda sem um 17 þúsund fjölskyldur eiga aðild að. FÍB býður fram krafta sína og vonast eftir góðu samstarfi við kjörna fulltrúa og stjórnvöld varðandi stefnumótun til framtíðar í samgöngu-, neytenda- og öryggismálum. Runólfur Ólafsson
Framkvæmdarstjóri
Eldsneytiskostnaður er veigamikill þáttur í framfærslu heimilanna og hækkun skatta á eldsneyti eykur verðbólgu með tilheyrandi hækkun á verðtryggðum skuldum heimilanna og þyngri afborgunum. Það er ljóst að eldsneytishækkanirnar koma 5
Efnisyfirlit 8
Veggjald Nei takk
9
Rangt eldsneyti á bíl
10
3500 líf: umferðaátak
11
Hættulegustu gatnamótin
12
Lyf og akstur
14
Sjálfkeyrandi bílar
16
Framtíð rafbíla
19
Stjórnmálaflokkarnir
26
Vetrardekkjakönnun FÍB
33
Umfelgun verðkönnun
34
EuroRap á Íslandi
38
Verðkannanir
39
Vaðlaheiðargöng
40 Gangbrautátak FÍB 42
Kannið olíustöðuna
40 Formúla 1 heimsótt á Monza
29
48
10
12 ROVER BÍLAPRÓFUN LAND
16
RAFMAGNSBÍLAR
3500 LÍF: UMFERÐAÁTAK
51
DAGSVERK MEÐ FÉLAGSMÖNNUM Í 25 ÁR
42 VW Tiguan reynsluekið 44 Viðtalið 46 Auðvelt að keyra í USA 48 Bílaprófun: Land Rover 50 Yngsti félagsmaður FÍB 51
FÍB aðstoðarmennirnir okkar
52 FÍB afslættir 53 FÍB öryggisvörur 54 Bifreiðaþjónusta
34
EURORAP VERKEFNIÐ Í HNOTSKURN
8
26
VETRARDEKKJAKÖNNUN FÍB 2017 / 2018 6
14
SJÁLFKEYRANDI LEIGUBÍLAR
39
VAÐLAHEIÐARGÖNG
19
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR OG SAMGÖNGUMÁL
Enn reynt að seilast ofan í vasa bifreiðaeigenda
S
amgöngumál eru alltaf ofarlega á baugi, þau eiga að vera það, og kannski hafa þau sjaldan verið til meiri umfjöllunar en á síðustu mánuðum. Góðar samgöngur eru forsenda búsetu og lífsviðurværis hjá mörgum hér á landi og því sjálfsögð krafa þeirra sem um vegina fara að þeir séu góðir og öryggið sett á oddinn. Getur verið að skattar sem eiga að renna til vegamála geri það ekki þegar til kastanna kemur, ótrúlegt ef slíkt reynist rétt, og er búið að viðgangast í mörg ár.
Í umræðu sem þessari finnst mörgum Vestfirðir hafa orðið útundan í þessum efnum hvað uppbyggingu og viðhald vega áhrærir. Það er með ólíkindum í upphafi 21. aldar að ástand vega á Vestfjörðum og víðar sé ekki betra en raun ber vitni. Við erum rík þjóð og því er hrein synd að vegamálum sé ekki betur komið á þeim slóðum og í raun þjóðarskömm. Framkvæmdir við Dýrafjarðargöng hófust fyrir skömmu og eiga þau örugglega eftir að verða bylting í samgöngum og auka um leið allt öryggi. En betur má ef duga skal. Hugmyndir að vegatollum hafa skapað mikla umræðu og hjá mörgum fallið í grýttan jarðveg. Ráðherra,
sem hefur haft þessi mál á sinni könnu, telur að með vegatollum megi fara í tugmilljarða framkvæmdir í vegakerfinu. Nefnd, sem ráðherra setti á laggirnar í þessum efnum hefur skilað tillögum og vill setja upp gjaldhlið á vegina inn og út úr Reykjavík og innheimta vegtolla af vegfarendum og verja þeim til endurbóta og viðhalds í vegakerfinu. Þessar hugmyndir hafa komið af stað mikilli umræðu enda viðkvæmt og finnst mörgum skattar og álögur nú þegar of miklar. Fróðlegt verður að fylgjast með framgangi þess máls og hver niðurstaðan þess verður. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2018 sem kynnt var í fyrr í haust er gert ráð fyrir töluverðum hækkunum á olíuog bensíngjaldi. Enn eina ferðina skal seilst ofan í vasa bifreiðaeigenda sem skila mun ríkissjóði hátt í 6 milljörðum króna í auka skatttekjur af bílaeldsneyti með virðisaukaskatti. FÍB hefur lýst yfir þungum áhyggjum af yfirvofandi hækkunum sem eru miklar og kæmu harkalega niður á bifreiðaeigendum. Ef þessar fyrirhugaðu hækkanir ná fram að ganga mun það leiða til þess að skattaálögur íslenska ríkisins á eldsneyti verði með þeim hæstu í Evrópu. Hins vegar er spurning hvort
þetta gangi eftir, hvort nokkur flokkur nú í aðdraganda kosninga hafi það á stefnuskrá sinni að hækka álögur á olíu- og bensín. Það kynni ekki góðri lukku að stýra og það vita flokkarnir sem bjóða sig fram til alþingiskosninga. Í upphafi skólaársins gerði FÍB úttekt á því hvernig staðið er að gangabrautarmerkingum og lýsingu á höfuðborgarsvæðinu. Þessi úttekt vakti mikla athygli og fékk töluverða umfjöllun í fjölmiðlum. Í ljós kom að sumstaðar er merkingum mjög ábótavant. Er vonandi að þessi umfjöllun hafi vakið yfirvöld á hverjum stað til umhugsunar um að hafa þennan mikilvæga þátt í lagi. Við viljum að börnin okkar séu örugg í umferðinni og að hafa merktar gangbrautir í góðu lagi er lágmarkskrafa hjá þeim sem yfir þær fara.
Jón Kristján Sigurðsson ritstjóri
7
BÍLAPRÓFUN FÍB SKATTAMÁL
VEGGJALD
- byggjum ekki bákn á bákn ofan bara til að fóðra milliliði á kostnað skattborgara
H
ugmyndir um vegatolla af vegunum til og frá höfuðborgarsvæðinu hafa fallið í grýttan jarðveg hjá stórum hluta landsmanna. En það er fátt nýtt undir sólinni og það er ekki langt síðan stjórnmálamenn voru komnir á fremsta hlunn með þessar sömu gjaldtökuhugmyndir í sambandi við helstu þjóðleiðirnar út frá höfuðborginni. Þá mótmælti FÍB kröftuglega að eignaupptaka á eigum almennings – þjóðvegunum - ætti sér stað. FÍB efndi til undirskriftasöfnunar gegn þessum áformum. Viðbrögð almennings voru mjög sterk og skýr. Þegar söfnuninni lauk þann 11. janúar 2011 eftir einungis eina viku höfðu 41.500 atkvæðisbærra landsmanna mótmælt einkavæðingarhugmyndunum með undirritun sinni. Í kjölfarið féllu stjórnvöld frá áformum sínum. Nýlegar kannanir benda einnig til þess að stór hluti landsmanna sé mótfallinn veggjöldum á vegina á suðvesturhorninu. Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins kynnti nýlega á samgönguþingi skýrslu þriggja manna starfshóps Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra um mögulega einkafjármögnun við uppbyggingu Reykjanesbrautar á milli Reykjanessbæjar og Hafnarfjarðar, Vesturlandsvegar frá Reykjavík að Borgarnesi og Suðurlandsvegar frá Reykjavík austur fyrir Selfoss. Niðurstaða hópsins er að leggja til að ómönnuðum gjaldhliðum 8
verði komið fyrir á þessum vegum. Heildarkostnaður við framkvæmdir á þessum vegum er metinn í skýrslunni 56 milljarðar króna. Starfshópurinn áætlar að gjaldtakan gæti verið frá 50% upp í 100% af gjaldskrá Hvalfjarðarganga. Það gerir 500 til 1.000 krónur fyrir staka ferð. Áætlun hópsins gerir einnig ráð fyrir að stórnotendur geti fengið verulegan afslátt líkt og þekkist í Hvalfjarðargöngunum. Starfshópurinn áætlar að veggjaldið til stórnotenda verði 150 til 300 krónur fyrir staka ferð. Þessi 100% munur á mögulegri gjaldtöku vekur upp spurningu um aðrar tölulegar niðurstöður starfshópsins. Oft nefna ráðamenn Noreg sem fyrirmynd um einkavæðingu vegaframkvæmda. Norðmenn eru að endurskoða og hverfa frá því fyrirkomulagi. Aðkoma margra hálfopinberra félaga að vegagerð í Noregi hefur aukið verulega kostnað við framkvæmdir og rekstur mannvirkja. Vaxtakostnaður félaganna er talsvert hærri en kostnaður ríkisins. Kostnaður vegna yfirstjórnar og reksturs er umtalsverður. Útgjöld vegfarenda aukast vegna skorts á hagrænni hugsun í þágu heildarinnar. Á síðasta ári greiddu vegfarendur 1.560 milljónir króna í vegtoll undir Hvalfjörð en þar af fóru 590 milljónir í arð til eigenda, tekjuskatt, virðisaukaskatt og rekstur vegna yfirstjórnar og skrifstofu. Það þýðir að af hverjum 1.000 krónum sem bifreiðaeigandi
borgar fyrir staka ferð undir fjörð þá renna tæplega 400 krónur í annað en fjármagnskostnað og viðhald ganganna. Það myndi muna um það að hafa um 600 milljónir króna aukalega á ári til vegagerðar. Við erum örríki og eigum ekki að byggja bákn ofan á bákn bara til að fóðra milliliði á kostnað skattborgara. Athygli vekur að rétt áður en sérskipuð nefnd samgönguráðherra kynnti hugmyndir um nýja skatta á umferðina í formi veggjalda á þjóðvegina til og frá Reykjavík þá var nýtt fjárlagafrumvarp vegna 2018 lagt fyrir Alþingi og þar voru kynntar nýjar álögur á bifreiðanotkun upp á tæpa níu milljarða króna en fjárframlög til vegaframkvæmda áttu að standa í stað á milli ára. Stjórn FÍB hefur nú líkt og áður alfarið lagst gegn hugmyndum um vegtolla. Þegar er verið að innheimta yfir 70 milljarða kr. í ríkissjóð af bílum og umferð og af því renna aðeins um 20 milljarðar til nýframkvæmda og viðhalds vega. Veggjald er ný og aukin skattheimta af bifreiðanotkun landsmanna sem leggst þyngst á íbúa suðvesturhornsins. Vegatollar líkt og eldsneytisskattar leggjast hlutfallslega þyngst á þá sem eru tekjulægri og þurfa sækja vinnu og þjónustu um langan veg. Hvaða nauðir reka menn til að vilja íþyngja þeim enn frekar?
AÐ SETJA RANGT ELDSNEYTI Á BÍLINN Margur bifreiðaeigandinn kannast við mistök við eldsneytisáfyllingu en þau eru í langflestum tilfellum á þann veg þegar að fólk setur bensín á dísílbíla sína. Mistök á hinn veginn eru sjaldgæfari. Ef fólk man eftir að gæta að sér þegar það tekur eldsneyti þá skal hér minnt á eftirfarandi: Bensíndælustútarnir eða dælubyssurnar á bensínstöðvunum eru með grænum lit en dísilbyssurnar eru svartar. Áfyllingarstútarnir eða –hálsarnir á bensínbílum eru þrengri en áfyllingarhálsarnir á dísilbílum. Dælustútarnir á bensíndælunum á bensínstöðvunum eru sömuleiðis grennri en stútarnir á dísildælunum. Það þýðir að hinir grönnu og grænu bensíndælustútar komast ofan í áfyllingarstúta dísilbílanna en hinir sveru svörtu dælustútar dísilolíunnar komast ekki ofan í þrönga tankhálsa bensínbílanna. Af þessum ástæðum eru lang flest eldsneytismistökin sem gerð eru, á þann veg að bensíni er dælt á dísilbíla og það getur orðið dýrt
spaug.
Hvað ef? En hvað er rétt að gera þegar maður uppgötvar að hafa dælt bensíni á tankinn? Í fyrsta lagi, settu bílinn ekki í gang. Ef þú nærð ekki að uppgötva mistökin en setur í gang og ekur af stað, muntu fljótt finna að gangurinn í dísilvélinni breytist. Fyrstu metrana brennir vélin þeirri olíu sem er í olíukerfinu sjálfu, í síunum og leiðslunum frá eldsneytistanknum en svo byrjar bensínið að koma inn í kerfið og þá dregur úr vinnslunni, gangurinn verður óeðlilegur og loks drepst á vélinni. Þá þarf ekki lengur vitnanna við. Ef þú hins vegar uppgötvar mistökin fljótt og ert einungis búin(n) að dæla kannski tveimur til allt að sex lítrum af bensíni í hálftóman tankinn sem kannski tekur 60 lítra eða meir, þá getur það sloppið að fylla bara tankinn með rétta eldsneytinu. Hlutfall ranga eldsneytisins í blöndunni er þá svo lítið að hætta á skemmdum er vart eða
ekki til staðar. Hringdu samt í sérfróðan aðila, t.d. hjá þjónustuveri viðkomandi bílaumboðs og spurðu hvort öllu sé óhætt. 50 þúsund kall í súginn Að fylla tankinn með röngu eldsneyti kostar mikið fé. Dæla þarf ranga eldsneytinu af geyminum og síðan þarf að eyða því, vegna þess að það er ónothæft. Þá þarf að skola eldsneytiskerfið út, skipta um síur og loks að kaupa nýtt rétt eldsneyti. Sjálf vinnan við hreinsunina tekur frá 1-3 klst. Að fylla röngu eldsneyti á tankinn getur því auðveldlega kostað nokkra þúsundkallana. Í fyrsta lagi þarf að dæla ranga eldsneytinu af geyminum og síðan það rétta að hreinsun lokinni. Hvorttveggja fer auðveldlega í um 20 þúsund krónur. Þá bætist við kranabíll á verkstæði með bílinn og vinna við tæmingu, síuskipti og útskolun sem kostar um og yfir 30 þúsund krónur ef atvikið á sér stað um helgi. Þar með er 50 þúsund kallinn farinn í súginn. Nánar má lesa um þetta á fréttavef félagsins; www.fib.is.
Við viljum hafa pláss fyrir allt Lífið tekur breytingum með tímanum. Börnin stækka, þeim fjölgar, áhugamálin breytast, ferðalögin lengjast. Það sem ekki breytist er að við þurfum pláss fyrir alla og allt sem þeim fylgir. Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun bilið í bílakaupunum.
HVÍ TA HÚS IÐ / S ÍA
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
9
BÍLAPRÓFUN FÍB UMFERÐAÖRYGGI
UMFERÐAÖRYGGISÁTAK FIA - 3500 MANNSLÍF
U
mferðaröryggisátak FIA; 3500 mannslíf hefur þann tilgang að hvetja ökumenn sem og alla aðra vegfarendur til að gæta betur að eigin öryggi og annarra í umferðinni. FÍB tekur þátt í að miðla boðskapnum til vegfarenda á Íslandi. Á hverjum einasta degi árið um kring láta 3500 manneskjur lífið í umferðinni í heiminum. Til að skerpa almenna athygli á mikilvægi umferðaröryggis hafa heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og mótorsports – FIA. hafið umferðarátakið 3500 mannslíf. Í því er fólk minnt á hvað það sjálft getur gert í málunum. Í 50 ríkjum hafa verið sett upp skilti og plaköt á áberandi stöðum eins og t.d. í strætisvagnaskýlum, á biðstöðv-um almenningssamgangna og við fjölfarnar samgönguleiðir. Á plaköt-unum gefur að líta áminningar frá alþekktu fólki í íþróttum og menningarlífi til ökumanna um hvað þeir sjálfir geti gert til að bæta ástandið. Hér á Íslandi er það FÍB sem kemur boðskap alþjóðaátaksins á framfæri og í sumar voru auglýsingar þess sýnilegar víða, m.a. í strætisvagnaskýlum og bæklingum sem dreift var. Á skiltunum gefur að líta hljómlistarmanninn Pharrell Williams, Formúlu 1 ökumennina Nico Rosberg, Fernando Alonso og hlaupadrottninguna Vanessu Low og áminningar þeirra til íslenskra ökumanna. Skilaboð Pharrell Williams eru; Ekki senda textaskilaboð 10
við akstur. Nico Rosberg minnir á að áfengi og akstur fara ekki saman, Vanessa Low biður ökumenn um að halda athyglinni að fullu vakandi við akstur og Fernando Alonso minnir ökumenn og farþega á að spenna alltaf beltin þegar ferðast er í bíl.
GATNAMÓT MIKLUBRAUTAR/HÁALEITISBRAUTAR HÆTTULEGUSTU GATNAMÓT LANDSINS
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL
l brunahreyfill, 127 hö. Geely EmiKringlumýrarbraut en þar á eftirár koma á milli ára frá árinu 2015. Af þeim 6 metanólbílum reynsluekið á Íslandi í eitt grand 7 hefur ekki verið á almennum Miklabraut / Grensásvegur, Miklaölvuðu ökumönnum sem olli slysum
Flest slys með meiðslum eiga sér stað á Hellisheiði og í öðru sæti er Reykjanesbrautin á milli VatnsleysustrandarHafinn er hér á landi 12 mánaða ogreynsluakstur Grindarvíkurvegar. á sex fólksbílum af Ef skoðuð eruEmigrand slys og óhöpp gerðinni Geely 7. Það(með sem ogerán meiðsla) sérstakt við sjáum þetta ervið þaðaðaðverstu bílarnir kaflarnir eru sitthvorum meginsem við verða knúnir hreinu metanóli Hvalfjarðargöngin. Þar eru mjög framleitt verður í verksmiðju Carbon stuttir kaflar þar sem þó nokkur óhöpp eiga sér stað. Þetta er það sem kemur m.a. fram í skýrslu um umferðarslys á Íslandi árið 2016. Ef þessir kaflar eru undanskildir þá er Hringvegurinn vestan við Hellisheiði fram hjá Litlu Kaffistof-unni verstur og þar á eftir kemur Hell-isheiðin. Verstu gatnamót landsins sl. fimm ár eru öll á höfuðborgarsvæðinu. Sé litið til slysa með meiðslum eru verstu gatnamótin Miklabraut / Háaleitisbraut og þar á eftir koma Recycling Miklabraut / Grensásvegur, Miklabraut International í / Kringlumýrarbraut og HáaleitisSvarts-engi við Grindavík. braut / Bústaðavegur. Ef flytur skoðuð Bílaumboðið Brimborg inneru slys og óhöpp, með án meiðsla, bílana sex og sér umogþessa tilraun eru verstu Miklabraut sem nú ergatnamótin verið að hleypa af stok- /
28
bílamarkaði hér til þessa, en það gæti braut / Háaleitisbraut og Hringbraut / breyst meðþví meiðslum árið 2016 voru 36 kum, Starfsfólk Brimborgar annast að áætlað verð er hagstætt Njarðargata. Íbúar Suðurnesja lenda í karlar og 12 konur. um bílana og heldur þeim við meðan miðað við stærð og búnað. Sem venjslysum m.v. Egill íbúafjölda, hvort ulegur Í samgönguáætlun áflestum tilrauninni stendur. Jóhannsson bensínknúinn bíll 2011-2022 gæti hann er að sem litiðBrimborgar er til ársinssagði 2016í samtali eða síðustu finnarétt umferðaröryggisáætlun forstjóri við kostað um 3,8 millj. kr. en semog bíllí fimm ára. að bílarnir, sem koma frá henniendurnýjanlegri eru sett fram metnaðarfull FÍB blaðið knúinn orku og þá án Þegar eru skoðaðir markmið og undirmarkmið. Ætlunin Kína, eru þéttbýlisstaðir búnir brunahreyflum (benaðflutningsgjalda og VSK gæti verðið árið 2016 sem lenda hins vegar Selfyssingar er að í hópi2,8þeirra sínvélum) sérstaklega hafa verið verið réttvera rúmlega millj.þjóða kr. sem best í flestum því slysum en fast á hæla þeirra standa sig með tilliti til banaslysa í aðlagaðar að ganga fyrir hreinu koma íbúar Reykjanesbæjar. Síðustu umferðinni en í þeim hópi höfum við metanóli. Í Kína væri komin talsverð reynsla á notkun metanóls sem fimm árin lenda íbúar Akureyrar, verið síðustu ár og ætlum okkur að eldsneyti á bíla og forvitnilegt Selfoss og Reykjanesbæjar í flestum halda því áfram. sjá hvernig reynslan slysumverði m.v.að höfðatölu. Einnig er ætlunin að fækka alvarlega hér álenda landi.í færri slysum slösuðum og látnum um fimm prósent Íbúarverður Egilsstaða er kínverskur bílaframen íbúarGeely annarra stórra kaupstaða á á hverju ári á tímabilinu. Til þess að leiðandi. Á Vesturlöndum landinu árið 2016 en síðustu fimmerárin ná fram því markmiði hafa verið sett þekkt sem eigandi fellur sá Geely heiðurbest Mosfellingum í skaut. fram undirmarkmið sem hvert um sig Volvo fólksbílaframleiðsl-unÍbúar Ísafjarðar standa sig næstbest stuðlar að fækkun alvarlegra slysa. nar í Svíþjóð og víðar, en eftir á eftir íbúum Egilsstaða en árið 2015 Til grundvallar markmiðum um að Geely keypti Volvo af Ford lentu Ísfirðingar í næstflestum slysum fækkun slasaðra og undirmarkmiðum hafa Volvobílar sjaldan eða aldrei m.v. höfðatölu. er meðaltal áranna 2006-2010 og er verið vinsælli og eru sem aldrei fyrr í Ölvunarslysum hafði fækkað nánast búið að reikna markmið hvers árs út sérflokki fyrir öryggi. árlega frá árinu 2008 og hafði þeim tímabilið, þ.e. ekki verða markmiðin Geely Emigrand 7 er fólksbíll af fækkað úr 73 árið 2008 niður í 22 árið endurreiknuð á hverju ári út frá gengi stallbaksgerð. ívið stærri og pláss2015.en Árið þeim svo aftur ársins á undan. meiri VW2016 Golf.fjölgar Lengdin er 4,63 upp 48 sem er tvöföldun m og íbreiddin er meira 1,79 m.en Vélin er 1,8
11
Lyf og stjórnun farartækja:
RAUÐI ÞRÍHYRNINGURINN
H
öfundar: Davíð Örn Sveinbjörnsson, lögmaður hjá ADVEL lögmönnum og aðjúnkt við Lagadeild Háskóla Íslands og Sveinbjörn Gizurarson, prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands Fjöldi lyfja eru merkt með rauðum þríhyrningi til að benda notandanum á að það sé varhugavert að aka eða stjórna vinnuvélum, eftir inntöku lyfsins. Þau lyf sem bera þennan þríhyrning hafa slævandi áhrif, gera notandann syfjaðan, hafa áhrif á dómgreind og hæfileika til að bregðast rétt og hratt við aðstæðum sem upp geta komið. Í flestum tilfellum eru þríhyrningsmerktu lyfin þess eðlis að þau hafa slævandi áhrif á miðtaugakerfið. Ef notandinn er þreyttur, þá eru áhrifin frá þessum lyfjum mun kröftugari en þegar viðkomandi er hress og vel 12
hvíldur. Þó er það þannig að ekki eru öll lyf sem hafa þessi áhrif merkt með hinum rauða þríhyrningi. Áfengi og akstur er hættuleg blanda, en mörg þeirra lyfja sem merkt eru rauða þríhyrningnum eða ættu að vera merkt honum eru jafn vandmeðfarin eða jafnvel varasamari en áfengi, séu þau notuð undir stýri. Árið 2006 ákvað Evrópubandalagið að styrkja samstarfsverkefni sem á að efla umferðar-öryggisáætlun Evrópubandalagsins. Þetta verkefni fékk vinnuheitið DRUID og birti vinnuhópurinn lokaskýrslu sína í ágúst 2012. Eitt af markmiðum þessa samstarfs var að útbúa viðmið yfir þá hæfnisskerðingu sem ökumenn verða fyrir þegar þeir eru undir áhrifum lyfja. Ákveðið var að miða hæfnisskerðinguna við þau áhrif sem sjást þegar alkóhólmagn í blóði er 0.1‰ (0.1 mg/ml). En hvað
felst í þessu, t.d. fyrir einstakling sem tekur lyf eins og kvíðastillandi lyf eða svefnlyf? Hér á eftir eru tvö dæmi: Dæmi 1: Ef sjúklingur tekur inn 1 mg alprazolam eða Tafil (t.d. við kvíða) þá mælist allt að 22 ng/ml af lyfinu í blóði, sem þýðir jafnframt að það mun taka allt að 18-20 klukkustundir fyrir blóðstyrkinn að komast niður í þau mörk sem samsvarar 0.1‰ alkóhóls. Dæmi 2: Ef sjúklingur tekur inn tvær töflur af svefnlyfinu zolpidem sem einnig er selt undir nafninu Stilnoct eða Zovand (20 mg), þá má búast við blóðstyrk sem mælist allt að 320 ng/ ml, en það þýðir jafnframt að það muni taka allt að 10-12 klukkustundir fyrir blóðstyrkinn að komast niður í þau mörk sem jafngilda 0.1‰ alkóhóls. Það er mikilvægt að hafa í huga að virkni þessara lyfja eykst verulega hjá
eldra fólki. Áhrif lyfja á hæfni ökumanna er ekki eingöngu bundið við slævandi lyf, því að örvandi lyf hafa einnig veruleg áhrif á dómgreind og hæfileika til að bregðast rétt við aðstæðum sem geta komið upp. Eins og nefnt var að framan eru ekki öll lyf sem framannefnd áhrif geta haft á notandann merkt hinum þekkta rauða þríhyrningi. Hér áður fyrr giltu á Norðurlöndum sameiginlegar reglur um notkun merkisins sem ætlað var að vekja athygli á áhrifum tiltekinna lyfja sem dregið gætu úr árvekni og viðbragðsflýti, sér í lagi í tengslum við akstur vélknúinna ökutækja. Fyrir um tíu árum breyttust forsendur fyrir samstarfinu sem var formlega hætt með þeim afleiðingum að Svíþjóð t.a.m. gerir í dag ekki kröfu um notkun þessa merkis. Þetta hefur bein áhrif á merkingar lyfja sem seldar eru hér á landi í svokölluðum fjöllanda pakkningum, þ.e. pakkningum sem markaðssettar eru í meira en einu landi. Slíkar pakkningar sem eiga uppruna sinn í Svíþjóð og ætlaðar eru til markaðssetningar þar og á Íslandi eru þannig ekki endilega með rauða varúðarþríhyrninginn þegar við á, þó að sambærilegar pakkningar ætlaðar Noregi og Íslandi beri almennt slíkt tákn. Hér skortir m.a. áskilnað í lögum um notkun merkisins hér á landi enda er ekki sérstakur hvati að merkja lyf eða lyfjahópa með merkinu með tilheyrandi viðbótarkostnaði. Ljóst er að fjölbreyttur hópur lyfja ætti að bera, og í sumum tilvikum ber ennþá þennan þríhyrning og mætti nefna lyf eins og: (1) sterk og meðalsterk verkjalyf; (2) flogaveikilyf; (3) kvíðastillandi lyf; (4) róandi lyf; (5) ýmsar hóstasaftir, en þau lyf sem eiga að stöðva hósta gera það með því að hafa áhrif á miðtaugakerfið; (6) ferðaveikilyf (þ.e. sjóveiki- og bílveikilyf); (7) ógleðilyf; (8) ofnæmislyf, en hafa ber í huga að ofnæmi getur það haft verulega slævandi áhrif og sömuleiðis hafa mörg ofnæmislyf slævandi áhrif; (9) mígrenilyf; (10) ýmis megrunarlyf; (11) lyf við ofvirkni; (12) lyf sem innihalda alkóhól; (13) svefntöflur; (14) þunglyndislyf og geðlyf; og (15) öll ólögleg fíkniefni.
Þar fyrir utan eru nokkur lyf sem ber að hafa í huga, því þau hafa áhrif á aksturshæfni, en þetta eru lyf eins og: (16) ýmis augnlyf, en mörg þessara lyfja hafa áhrif á sjónina. Þau geta skert sjónsviðið eða skert hæfileikanann að sjá skýrt, því má ekki aka eftir að hafa fengið slík lyf í auga eða augu; (17) sum blóðþrýstingslækkandi lyf, en einstaka lyf sem notuð eru til meðhöndlunar á háum blóðþrýstingi geta valdið svima og óþægindum og skert hæfileika okkar að bregðast við óvæntum aðstæðum; og (18) insúlín, en í sumum löndum þurfa sykursjúkir að sýna fram á að þeir hafi stjórn á blóðsykrinum t.d. með því að geta lagt fram blóðprufubækur. Ef insúlínskammturinn er of stór, þá fellur blóðsykurinn það mikið að einstaklingurinn fær svima og önnur óþægindi sem skerða hæfileika hans til að stjórna farartæki. Á Íslandi í dag er staðan sú að ábyrgð á áhrifum lyfja er að miklu leyti velt yfir á notanda lyfs með texta í fylgiseðli um að hver og einn verði að leggja mat á áhrif lyfja á hæfni til aksturs og notkunar véla, vissulega eru ákveðin lyf þar sem ítarlegri upplýsingar um áhrif á færni er að finna, en það er ekki algilt. Þar sem ekkert samræmi er á notkun rauða þríhyrningsins geta einstaklingar ekki reitt sig á hann til þess að aðstoða sig við þetta áhættumat Þetta er sérkennilegt þar sem í dag búum við yfir miklu magni upplýsinga um áhrif lyfja. Einnig er þetta bagalegt í ljósi þess að einstaklingur sem er undir áhrifum lyfja ekki endilega fær um að meta rétthæfni sína til aksturs
og notkunar véla. Þetta vekur upp ýmsar spurningar um hver eigi að bera ábyrgðina, bæði siðferðilega sem og lagalega. Með auknum ferðamannastraumi hefur orðið mikill vöxtur fyrirtækja sem sjá um fólksflutninga, svo og mikil aukning farartækja á íslenskum vegum. Það er því brýnt að upplýsingar um áhrif lyfja sem skerða hæfni og viðbragðstíma sé skilmerkilega komið á framfæri við viðeigandi aðila. Eftir atvikum kann að vera ástæða til þess að setja strangari reglur um þá ökumenn sem stunda fólksflutninga í atvinnuskyni og/eða hvernig eftirliti er háttað. Vegna almannahagsmuna og í ljósi slakra krafna til upplýsinga á pakkningum lyfja verður að telja einstaklega mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk upplýsi um áhættuna sem fylgir því að nota t.a.m. ofannefnd lyf samhliða því að stjórna vinnuvélum eða aka í umferðinni. Yfirvöld í samstarfi við lyfjaframleiðendur og innflytjendur verða þar að auki að endurskoða afstöðu sína til varúðarmerkinga eins og rauða þríhyrningsins og nauðsyn þess að setja reglur um slíkt. Í dag liggur fyrir afrakstur mikilvægrar vinnu á vettvangi Evrópusamstarfs sem auðveldað gæti markvissari merkingar á lyfjum. Almannahagsmunir mæla með því að neytendur lyfja séu sem best upplýstir um möguleg áhrif lyfja, með einföldum og markvissum hætti. Rauði þríhyrningurinn var gott dæmi um slíkt og er vafalaust í hugum margra ennþá þýðingarmikill. 13
BÍLAPRÓFUN FÍB SAMGÖNGUMÁL
T
ækni sjálfkeyrandi leigubíla hefur þróast með ógnarhraða. Margir eru þeirra skoðunar að sjálfakandi leigubílar sé framtíðin og þessi ferðamáti muni að einhverju leyti taka yfir almenningssamgöngur í nánustu framtíð. Menn eru kannski ekki á einu máli um hvað þetta gerist hratt en það gæti jafnvel gerst mun fyrr en margan óraði fyrir. Á sama tíma þegar þetta er að gerast er Borgarlínan í undirbúningi og fluglest á milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Tækninni fleytir hratt fram og þegar Borgarlína verður loksins að veruleika veit engin nema hún verði þá orðin barn síns tíma. Frosti Sigurjónsson hefur haft sig í frammi í umræðunni um þessi mál enda áhugamaður um þau en Frosti er rekstrarhagfræðingur að mennt og fyrrverandi alþingsmaður. ,,Það hefur komið mér á óvart að ráðgjafafyrirtæki sem vinna að greiningu í þessum málum segja okkur að tæknin er lengra komin en okkur hafi órað fyrir. Tæknin, sem sjálfkeyrandi leigubílar byggja á, gervigreind, sjón- og rafhlöðutækni, hefur þróast með ógnahraða. Margir hafa haldið að þessi tækni yrði orðin algeng um 2050 en núna í dag er mikið talað um að þessum bílum eigi eftir að fjölga mikið á götunum eftir 2020. Jafnvel eftir 2030 verður mikið af þessum bílum komið í notkun og auðvelt að fá slíka bíla til að skutla sér. Þetta verður svo eftir það orðnar ríkjandi almenningssamgöngur. Þess vegna 14
SJÁLFKEYRANDI LEIGUBÍLAR hefur mér fundist mikilvægt að þeir sem eru að leggja á ráðin með hina svokölluðu Borgarlínu skoðuð vel allar þær skýrslur sem eru að koma fram í sviðsljósið um málið. Þessi tækni er raunverulega komin á sjóndeildarhringinn en eins og ég hefur áður sagt gerast hlutirnir mjög hratt,“ segir Frosti Sigurjónsson. Hvaða skoðun hefur þú á Borgarlínunni. Verður hún hreinlega úrelt þegar hún verður að fullu komin til framkvæmda? ,,Ef spárnar ganga eftir og skýrslur sem ráðgjafafyrirtæki hafa verið að leggja fram í þessum efnum þá verður árið 2040 þegar Borgarlínan verður tilbúin bara búin að safna ryki. Það vill enginn þá ganga í nokkrar mínútur út á stoppistöð og bíða þar í góða stund eftir strætisvagni eða sporvagni. Á sama tíma býðst almenningi sjálfakandi leigubíll upp að dyrum á tveimur mínútum sem fer með þig hvert sem þú vilt fyrir minni tilkostnað,“ segir Frosti. Frosti leggur á það áherslu að mikilvægt sé að ráðamenn hugsi málið upp á nýtt. Er það alveg öruggt að þessi Borgarlínutækni, sem notuð hefur verið í mörgum stórborgum, sé framtíðin eða fortíðin. Ég hef tekið eftir því að skýrslan, sem unnin hefur verið fyrir sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu, er að sjá ekki stafkrók um þessa sjálfakandi leigubílatækni. Skýrslan um Borgarlínuna byggir líklega á gögnum frá 2012 en eðli máls var ekkert vitað um þessa tækni á þeim tíma. ,,Mér finnst það vera óábyrgt að fara að leggja á ráðin með svona kostnaðarsamar fjárfestingar eins og Borgarlínan er án þess að horfa á alla möguleikana. Þegar beinlínis er verið að vara við, finnst mér óvarlegt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Kostnaðurinn er ekki bara yfir 50 milljarðar í útlögðum peningum fyrir gatnagerð, öllum lögnum og öðrum framkvæmdum, heldur er líka verið að leggja undir þá innviði sem við höfum borgað dýrum dómum fyrir nú þegar, sem eru göturnar sem bílarnir keyra á. Það verður þrengt að annarri bílaumferð og að þessum sjálfkeyrandi bílum sem eru framtíðin. Hugsanlega er verið að leggja stein í götu nýjustu tækni. Ef við fjárfestum í einhverju sem síðan safnar ryki er það grafalvarlegt mál. Peningarnir hefðu þá getað farið í gagnlegri hluti eins og að bæta þjónustuna og gatnakerfið almennt,“ segir Frosti. Frosti segir að í þessari umræðu allri spyrji menn sig eðlilegra spurninga. Ein þeirra gæti hljómað á þann veg, -ráða sjálfkeyrandi leigubílar við álags-
Mercedes-Benz F 015 Concept car
Frosti Sigurjónsson Rekstrarhagfræðingur og fv. alþingismaður:
toppa í umferðinni? Nýjar rannsóknir hafa sýnt fram á að það þarf ekki nema 5-10% af þessum bílum í umferð þá byrjar þeir að draga úr umferðartöppum. Þetta eru sláandi tölur til hins betra. Það er því mjög mikilvægt að menn staldri við, skoði hvað sé á sjóndeildarhringnum, áður en ákvarðanir eru teknar um uppbyggingu sem tekur næstu áratugina og gæti verið í kolranga átt. Mér finnst hugmyndin um Borgarlínuna illa ígrunduð en samt á sama tíma er eins og í lok þessa árs verði þetta verkefni komið á fleygiferð. Ekki verður svo auðvelt að vinda ofan af því eftir það, við skulum hafa það í huga,” eins og Frosti kemst að orði. Ertu á þeirri skoðun að með tíð og tíma og með tilkomu sjálfakandi leigubíla þá minnki um leið einkabílaeign almennt? Já, ég held að það sé alveg ljóst. Við eigum einkabíl út af frelsi sem hlýst af því og við getum ekið frá útidyrunum þegar við viljum. Ef við getum fengið sjálfakandi leigubíl sem getur gert þessa hluti, er tilbúinn hvenær sem er og fer þangað sem við viljum þá minnkar ástæðan fyrir því að eiga eigin bíl. Það er dýrt að taka leigubíl í dag en ég held að sjálfakandi leigubílar verði miklu ódýrari. Menn eru að spá því að þetta muni kosta 10% af því sem kostar að taka venjulegan leigubíl í
dag. Ef allar skýrslur standast og þetta rætist á næstu 10-20 árum verður lítil ástæða til þess að eiga einkabíla nema þá kannski til ferðalaga. Ég get nefnt það að því er spáð að stórfeld fækkum verði á einkabílum í Bandaríkjunum. Það er ekki bara dýrt að kaupa bíl rekstur hans kostar mikið eins og allir kannast við,“ segir Frosti. Í skýrslunni frá RethinkX eru færð rök fyrir að sjálfakandi rafbílar muni yfirtaka bílamarkaðinn með sívaxandi hraða. Árið 2030 muni akstursþjónustufyrirtæki starfrækja stóra flota af sjálfakandi rafbílum sem muni flytja fólk milli staða með svipuðum þægindum og leigubílar gera í dag. Kostnaðurinn verði hins vegar aðeins brot af því sem við eigum að venjast. Strætisvagnar, léttlestir og sporvagnar muni vart geta keppt við þessa nýju tækni, hvorki í verði né hagræði fyrir notendur. Af þessu mun einnig leiða að sífellt færri vilji eiga einkabíl. Dæmigert er að einkabíll sé ónotaður 90% af líftímanum og noti bílastæðið meira en vegina. Þetta er arfaslök nýting á dýru farartæki og landrými. Fólk virðist réttlæta þessa sóun með þeim miklu þægindum og frelsi sem einkabíllinn veitir. Með tilkomu sjálfakandi rafbílaflota bjóðast hins vegar svipuð
þægindi og frelsi fyrir aðeins brot af þeim útgjöldum sem fylgja einkabíl. Flestir muni kjósa að spara sér þessi útgjöld. RethinkX benda á að ráðstöfunartekjur heimila geti aukist verulega (um 10%) þegar einkabíll hættir að íþyngja rekstri heimilisins. Þar sem sjálfstýrðir rafbílar á vegum akstursfyrirtækja geta afkastað margfalt fleiri farþegum en einkabílar, má gera ráð fyrir mikilli fækkun bifreiða. Eftirspurn eftir nýjum bílum gæti fallið um allt að 70% með tilheyrandi afleiðingum fyrir bílaframleiðendur, söluaðila, þjónustuaðila, tryggingafélög og aðra aðila sem tengjast greininni. RethinkX spáir því að eftirspurn eftir olíu verði mest 200 milljónir tunna árið 2020 en dragist síðan hratt saman og verði 70 milljónir tunna árið 2030. Verð á olíu muni lækka verulega og dýrari olíulindir verði ósamkeppnishæfar í verðum t.d. í Norðursjó og víðar. RethinkX benda á að sjálfkeyrandi rafbílar muni leiða til minni losunar á gróðurhúsalofttegundum og færa rök fyrir því að sól- og vindorka muni að miklu leyti duga til að knýja bílaflotana árið 2030. Mengun í borgum vegna útblásturs frá umferð mun minnka um 90% og þannig dragi úr sjúkdómum vegna loftmengunar. 15
RAFBÍLAVÆÐINGIN
Þ
að verður ekki framhjá því litið að spennandi tímar eru fram undan í rafbílavæðingunni. Margir sem eru að íhuga bílakaup skoða rafbílinn sem mjög álitlegan kost enda tækni og framþróun þeirra í alla staði fleytt mikið fram á síðustu misserum. Stjórnvöld hafa ennfremur komið í æ meira mæli til móts við verkefnið með því að lækka skatta svo léttara verði fyrir kaupendur að eignast rafbíl enda ljóst að um þjóðhagslega hagkvæmi sé að ræða. Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins, segir í spjalli við FÍB-blaðið að staðan í rafbílavæðingunni sé nokkuð góð. Hann segir að tegundum rafbíla sem í boði eru hefur fjölgað og íslenskir bifreiðaeigendur hefðu brugðist vel við því. Innvæðing
16
rafbíla gengur vel hér á landi en einungis Norðmenn standa framar á því sviði. ,,Íslendingar eru samt sem áður að taka vel við sér en það sem hefur vantað upp á í þeim efnum er langtímasýn stjórnvalda. Stjórnvöld hafa verið að veita skattaívilnanir til skemmri tíma en við viljum hins vegar sjá langtímastefnumið. Það er hins vegar mat okkar að stjórnvöld séu á réttri leið og hafa stutt betur við þetta á síðustu árum. Ísland er í lykilaðstöðu að verða eitt fremsta rafbílaland í heimi á mjög skömmum tíma,“ segir Jón Trausti - Hvað eru rafbílar orðinn stór hluti bílaflotans í dag? ,,Sem hlutfall af heildarbílaflota er þetta mjög lítið ennþá en við erum í því sambandi að tala um 1-2%. Salan rafbílum er aftur á móti að aukast
Jón Trausti Ólafsson formaður Bílagreinasambandsins:
jafnt og þétt og ef ég man rétt þá er salan á hreinum rafbílum rétt um 4% af heildarskráningum bíla á þessu ári. Hins vegar er salan á tengi tvinnbílum heldur hærra og ætli hlutfallið sé ekki orðið í kringum 15%. Salan á tengi tvinnbílum hefur verið heldur hærra hér á landi en á rafbílum og það sama á við í Noregi. Þessi nýja tengil-tvinntækni er kannski ákveðið millibil áður við förum aftur alfarið í hreina rafbíla. Allir bílaframleiðendur eru að koma með nýja rafbíla inn á markaðinn á næstum árum. Sem dæmi um það get ég nefnt að Mercedes Benz ætlar fyrir 2022 að bjóða upp á tíu mismundandi gerðir af hreinum rafbílum. Bílaframleiðendur eru að vinna hratt í þessum efnum og margar tegundir bíla munu standa kaupendum til boða, framboðið verður miklu meira en það er í dag,“
segir Jón Trausti. Aðspurður hvort hann sjái hlutina gerast hratt og rafbílaeign landsmanna muni stækka fyrr en margan grunaði segir Jón Trausti að það ljóst að staðan verði allt önnur eftir 2-3 ár enda verði framboðið miklu meira. Spurning er hins vegar hvernig stjórnvöld ætli að mæta því, eru þau tilbúin að þessi þróun eigi sér stað? Ég er sannfærður um það að Íslendingar stefna á rafbílavæðinguna nokkuð hratt. - Erum við í stakk búin að fara inn í þessa tæknivæðingu, er allt til alls í dag? ,,Ég held að raunverulega séu innviðirnir hér á landi nokkuð fínir. 99% af þeirri orku sem við notum til að knýja ökutækin áfram í landinu er hrein raforka framleidd í jarðvarmavirkjunum eða fallvatna- og er því Ísland mjög vel í stakk búið að takast á við rafbílavæðinguna. Síðan er drægi rafbílana að aukast hröðum skrefum. Drægi þeirra undanfarin ár
hefur verið 150-200 km miðað við íslenskar aðstæður en ný tækni og framþróun í framleiðslu rafhlaðna gefur tilefni til að ætla að bílar sem eru að koma á markað næstu mánuði og ár munu hafa drægi upp í 400-500 km á rafhlöðunni sem er orðið mjög viðunandi. Þá þarf ekki lengur þessa miklu innviði, eins og staura út um allt, heldur dugar fólki að hlaða bílana heima hjá sér. Síðan ætti það að vera hvati fyrir vinnustaði að setja upp aðstöðu fyrir rafbílaeigendur því það hefur sýnt sig að ef að boðið er upp á hleðslu á vinnustað þá eru starfsmenn þess fyrirtækis líklegri en aðrir að fá sér rafbíl. Rannsóknir frá bandarískum framleiðendum hafa leitt þetta í ljós. Innviðir hér á Íslandi eru mjög góðir fyrir rafvæðingu og það er ekkert sérstakt sem stöðvar okkur í því. Hins vegar ættu við fyrir löngu að vera búin að innleiða reglugerðir varðandi nýbyggingar og þar sé gert
ráð fyrir að í bílastæðahúsum, -kjöllurum og bílastæðum verði hægt að koma fyrir hleðslubúnaði. Í fjölbýlishúsum er líklegt að eftir einhver ár verði að minnsta kosti helmingur íbúanna á rafbíl og því verður að gera ráð fyrir því í upphafi að hægt verði að hlaða bílinn við þessi hús. Ekki að ráðast í þá framkvæmd eftir á þegar það verður mun kostnaðarsamra og flóknara en ella. Nýbyggingar í dag ættu að gera ráð fyrir þessu því það ætti að vera búið að innleiða reglugerð þessu samfara þar sem verktakinn er skyldaður til þess að ganga frá innviðum fyrir hleðslu rafbíla fyrir tilvonandi íbúa. Svo er ekki í dag en sem betur fer eru sumir verktakar farnir að huga að þessu og bjóða upp á rafhleðslustaura við hvert bílastæði í bílastæðishúsum. Reglur um þetta mættu vera miklu skýrari og verða það vonandi úr þessu,“ segir Jón Trausti. Hann var spurður hvort hinn
17
venjulegi launamaður ætti þess kost að geta fjárfest í rafbíl segir Jón Trausti það alveg öruggt. Kostnaður við að framleiða rafhlöður fyrir rafmagnsbíla hefur lækkað mjög hratt hin síðustu ár og mun halda áfram að lækka vegna nýrrar tækni og meiri hagkvæmi við framleiðsluna. Þetta verður örugglega einn af þeim valkostum sem hvað líklegastir til að verða vinsælir á Íslandi. Ekki síst vegna okkar grænu raforku. - Hvað heldur þú að eftir svona tíu ár verði rafbílamarkaðurinn orðinn stór? ,,Ég held að á Íslandi taki ákveðinn tíma að endurnýja núverandi bílaflota því flotinn sem nú er til staðar telur yfir tvö hundruð þúsund bíla og þar af er langstærsti hlutinn, um 90%, ekki rafbílar. Eftir tíu ár tel ég að sala á rafbílum munu nema allt að 50% og eftir því sem bílar úreldast og verður fargað þá mun bílaflotinn endurnýja sig í því að verða hagkvæmari og rafbílavæddari. Ég get kannski ímyndað að eftir tíu ár mun bílaflotinn verða um 10% rafbíla af heildarflotanum og það tekur auðvitað lengri tíma að endurnýja
18
allan flotann. Ég get kannski séð fyrir mér að í kringum 2040 verði bílaflotinn meira og minna sjálfkeyrandi rafbílar. Það er mikil sjáanlegt breyting á bílum eftir 20-30 ár,“ segir Jón Trausti. - Er spennandi kostur fyrir bílaeigendur að íhuga það alvarlega að kaupa rafmagnsbíl? ,,Já, ég held að það sé bara mjög spennandi kostur en hins vegar megum ekki gleyma því að þróunin hefur líka verið gríðarlega mikil í bensín- og díselvélum. Sú tækni er ennfremur að styrkja sig enn frekar og bílarnir eyða mun minna eldsneyti en áður. Við sjáum í dag dísilbíla sem eyða rétt um þremur lítrum og bensín-bílum sem eyða 4-5 lítrum á 100 km. Þetta eru mjög hagkvæmir kostir í dag þannig að samkeppnin á milli rafbíla og bensín- og díselbíla hins vegar mun bara harðna, sem er af hinu góða fyrir neytandann. Eins og við vitum þegar krónan er sterk er bensínið ódýrara og þá leitum við síður í aðra orkugjafa. Við megum ekki gleyma þessum hefðbundnu orkugjöfum strax, þeir verða áfram vinsælir og hagkvæmari með
hverju ári. Rafbílarnir munu engu að síður veita þessum bílum samkeppni,“ segir Jón Trausti. - Þú ert búinn að starfa lengi í þessum geira. Sérð þú fyrir þér spennandi tíma fram undan? ,,Já, það er ótrúlega mikið að gerast í bílaheiminum og ég hef sagt það að þróunin verður mjög mikil á næstu fimm árum. Það eru að koma fram nýir orkugjafar, sjálfkeyrandi bílar og margt annað væri hægt að nefna. Á sama tíma hefur gæði bílaframleiðslu almennt aukist mikið og bílaframleiðendur sífellt að koma með ný módel og dæmi eru um að framleiðendur séu með 40-50 mismunandi boddý sem þeir bjóða upp á. Það er bara mikið um að vera og skemmtilegt að vinna í þessu umhverfi. Bílgreinin er áhugavert umhverfi fyrir ungt fólk að vinna í, góð laun eru greidd, hvors sem er í þjónustu eða sölu, og þetta er eftirsóknarvert umhverfi fyrir fólk að starfa í,“ sagði Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins, í spjallinu við FÍB-blaðið.
STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR OG SAMGÖNGUMÁL Samgöngumál er ein af grunnstoðum þjóðfélagsins og ljóst að þessi málaflokkur mun verða í brennidepli fyrir Alþingiskosningarnar sem haldnar verða 28. október. Í aðdraganda þeirra lagði FÍB spurningar, sem lúta að samgöngum fyrir átta framboð sem bjóða fram í öllum kjördæmum landsins. Flokkarnir brugðust vel við óskum FÍB að taka þátt og má sjá svör þeirra hér fyrir neðan. FÍB kann flokkunum bestu þakkir fyrir skjót og góð viðbrögð. Miðflokkurinn baðst undan þátttöku sökum anna í undirbúningi fyrir kosningarnar.
Í
fyrirliggjandi frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2018 segir á bls. 257: „Framlag til framkvæmda og viðhalds á vegakerfinu lækkar um 112 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Framlagið nemur um 17,6 ma.kr. en stefnt er að því að ríflega 8 ma.kr. af henni fari til viðhalds vega, en mörg brýn viðhaldsverkefni bíða.“ Er þinn flokkur/framboð sátt við þennan lið í fjárlagafrumvarpinu varðandi framkvæmdir og viðhald vegakerfisins á næsta ári? BJÖRT FRAMTÍÐ Nei ekki að fullu enda má alltaf gera betur. Frumvörp eru ávallt málamiðlun. FLOKKUR FÓLKSINS Nei ! FRAMSÓKN Útrýma þarf hættuástandi í vegakerfinu og auka umferðaröryggi. Samgöngur er ein mikilvægasta fjárfesting sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð. Vegakerfið er víða bágborið, einmitt á þeim stöðum sem eru í mestri hættu fyrir byggðaröskun. Því þarf að nota hluta af ríkulegum afgangi í fjárlögum til að bæta m.a. vegakerfi landisins. PÍRATAR Píratar eru ekki sáttir við þennan lið fjárlagafrumvarpsins. Vegakerfið er
víða mjög illa farið og nýframkvæmdir mjög brýnar. Stórauka þarf framlög til þessa liðar frumvarpsins. SAMFYLKINGIN Nei! Þau framlög sem ríkisstjórnin gerir ráð fyrir til samgangna og fjarskipta er of lítil og það hamlar eðlilegri þróun atvinnulífs og rýrir búsetuskilyrði víðs vegar um landið. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Í nýjum lögum um opinber fjármál var fjárlagaliðunum Nýframkvæmdir á vegakerfinu og viðhald steypt saman í einn lið Framkvæmdir á vegakerfinu. Í fjárlagavinnunni fyrir árið 2017 hækkaði framlag til viðhalds vegakerfisins um 2,3 ma.kr. frá árinu 2016 og fór úr 5,85 ma.kr. í tæplega 8,2 ma.kr. og er miðað við það í áætlunum Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir lítillegri lækkun á framlögum til framkvæmda á vegakerfinu 2018, en samkvæmt sundurliðun í 3 ára fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að framlagið hækki um ríflega milljarð 2019 og svo aftur um ríflega hálfan milljarð 2020. Sjálfstæðisflokkurinn er þeirrar skoðunar að meira fé eigi að verja til vegagerðar, enda lítur flokkurinn svo á að þarna sé um lágmarksfjárframlag að ræða. Í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu sem lýtur forystu Sjálfstæðisflokksins hefur verið unnið að gerð tillagna um aukin fjárframlög til vegagerðar á næsta ári upp á allt að 5 ma.kr. Af því tilefni var fyrirhugaður
fundur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra með ráðherranefnd um ríkisfjármál, þar sem ræða átti þessar tillögur. Málið hafði einnig verið kynnt fyrir formönnum fjárlaganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar og naut stuðnings beggja. Framlög til viðhalds og framkvæmda skv. fjárlagafrumvarpinu nema um 17,6 ma. kr. og af þeim er ráðgert að verja um 8 ma.kr. til viðhalds á vegakerfinu, en mörg brýn viðhaldsverkefni bíða vegna vaxandi fólks- og vöruflutninga. Alls eru um 66% af tæplega 10 ma. kr. framlagi til stofnframkvæmda bundið í verkefnum sem þegar hefur verið samið um. Umfangsmestu verkefnin eru Dýrafjarðargöng, Dettifossvegur, nýr kafli á hringveginum um Berufjarðarbotn, auk smíði Vestmannaeyjaferju og fyrsta áfanga um Teigsskóg. VIÐREISN Í kjölfar hrunsins var fjármagn til viðhalds dregið saman. Ljóst er að á yfirstandandi ári hefur margt færst í betra horf þó margt sé enn óunnið. Vert er að benda á að framlög aukast um tæp 14% eða rúma 4 milljarða milli áranna 2016 og 2018. Aukafjárveitingar 2017 sem settar voru inn að frumkvæði fjármálaráðherra og samgönguráðherra hafa komið mörgum brýnum verkefnum af stað sem áfram verða fjármögnuð á næstu árum. 19
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
VINSTRI GRÆN Nei. Vegakerfið hefur verið látið sitja á hakanum allt of lengi. Það gleymist oft í umræðum um niðurgreiðslu skulda að það að láta innviði grotna niður er lántaka með afborgunum inn í framtíðina. Vinstri græn hafa talað fyrir því að stórauknir fjármunir verði settir í uppbyggingu og viðhald vegakerfisins. Við afgreiðslu fjárlaga 2017 töluðum við fyrir því að farið yrði eftir gildandi samgönguáætlun, en því miður var ekki meirihluti fyrir því og þingmenn sem höfðu stutt þá áætlun kusu með fjárlögum sem þýddu að ekki yrði við hana staðið.
2
a
Á þessu ári má gera ráð fyrir að ríkissjóður hafi yfir 70 milljarða króna í skatta af bifreiðum og umferð. Miðað við forsendur fjárlaga 2017 rennur um 33% af innheimtum bílasköttum til vegamála – með 1.200 m.kr. viðbótarframlaginu. Er þinn flokkur/framboð sáttur við þessi fjárframlög til vegamála? BJÖRT FRAMTÍÐ Framlögin mættu vera meira í samræmi við þörf.
almennum sköttum ólíkt því sem áður var en til síðustu áramóta voru sérstakt vörugjald af eldsneyti, svo kallað bensíngjald, olíugjald og kílómetragjald, einnig kallað þungaskattur, markaðar tekjur til vegamála. Í dag koma tekjur ríkisins af ökutækjum af vörugjaldi af ökutækjum, vörugjaldi af bensíni, bæði almennu og sérstöku, kolefnisgjaldi á bensín og dísilolíu, olíugjaldi, virðisaukaskatti af framangreindum gjaldstofnum, bifreiðagjaldi og kílómetragjaldi. Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að einfalda og fækka gjaldflokkum og gera þessa skattheimtu gagnsærri. Í fjármálatíð Sjálfstæðisflokksins hófst vinna við endurskoðun þessara gjalda. Í eftirfarandi töflu má sjá heildartekjur í milljónum króna af umferðinni á árunum 2010 til 2016 (7) og framlög ríkissjóðs til Vegagerðarinnar á sama tíma (án hafnarframkvæmda): Allar tölur eru á föstu verðlagi, reiknað með vísitölu neysluverðs til apríl 2017. Hér ber að hafa í huga að til verkefna Vegagerðarinnar heyra, fyrir utan framkvæmdir, rekstur og viðhald á
virðistaukaskattur áætlaður 11 ma.kr. Samtals voru því samanlagðir allir skattar af bifreiðum og notkun þeirra um 70 ma.kr. árið 2016 sem skýrir þá tölu sem FÍB vísar til. Skattar af bifreiðum og umferð eru ætlaðir til uppbyggingar samfélagsins alls í gegnum ríkissjóð. Kostnaður við slys í umferðinni er metinn afar hár bæði fyrir einstaklinga og hið opinbera. Samfélagslegur og einstaklingsbundinn kostnaður vegna slysa og óhappa var metinn 62 m.kr. pr. einstakling fyrir alvarleg slys og 13 m.kr. fyrir minni eða lítil meiðsl á verðlagi þess árs: Umferðarslys hafa í för með sér gríðarlegan kostnað. Hluta þess kostnaðar má meta á markaði en aðra ekki, s.s. skerðingu lífsgæða, þjáningu og sorg. Algengt er að skipta kostnaði vegna samgönguslysa í beinan, óbeinan og óáþreifanlegan. Beinn kostnaður er sá sem tengist slysinu sjálfu, s.s. vegna eignatjóns auk kostnaðar í heilbrigðiskerfi og lögsýslu. Óbeinn kostnaður kemur til vegna framleiðslutaps alls samfélagsins sem hlýst af slysinu, ef um andlát eða
vegakerfinu, almenningssamgöngur, vaktstöð siglinga, vitabyggingar, sjóvarnir, Vestmannaeyjaferja, Landeyjahöfn, Húsavíkurhöfn, jarðgöng á Bakka og ferjubryggjur. Talan 70 ma.kr. sem vísað er til í fyrirspurn FÍB, inniheldur, auk VSK á vörugjald sem reiknað er með í töflunni, VSK af innflutningi bifreiða varahluta og jafnvel fleiru. VSK er flokkaður sem almennur neysluskattur og notaður til þess að fjármagna útgjöld ríkisins, s.s. heilbrigðis- og menntakerfið, enda nemur VSK um 29% af heildartekjum ríkissjóðs fyrir árið 2018. Virðisaukaskattur af innkaupsverði eldsneytis án gjalda er áætlaður 12 ma.kr. árið 2016 og af innflutningsverði bifreiða sama ár er
varanlegar eða tímabundnar fjarvistir af framleiðslu einstaklinga er að ræða. Óáþreifanlegur kostnaður eru þau töpuðu lífsgæði, sorg og þjáning sem af slysunum leiða. Þennan kostnaðarlið er erfitt að meta á markaði, en engu að síður hafa verið þróaðar aðferðir til að leggja peningalega mælikvarða á hann. Þessi kostnaður leggst á ýmsa aðila í samfélaginu og ekki einungis á þá sem fyrir slysunum verða. Séu þessar tölur heimfærðar upp á fjölda slysa árið 2015, þegar fjöldi alvarlegra slysa var 155 og minniháttar slysa 741, er ljóst að kostnaður þeirra var nálægt 20 milljörðum króna, bara þetta eina ár. Er þá algjörlega litið framhjá banaslysum og óhöppum án meiðsla.
FLOKKUR FÓLKSINS Nei við viljum að þessir 70 milljarðar fari óskiptir til vegamála. FRAMSÓKN Framlög til vegamála eru of lítil en skattheimtan er næg til að standa undir auknum framlögum til nýbygginga og viðhalds. PÍRATAR Nei, Píratar eru ekki sáttir. Pírötum finnst eðlilegt að allar skatttekjur sem tengjast þessum málaflokki renni beint í hann. SAMFYLKINGIN Sjá svar 2b SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Með tilkomu laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, lögðust markaðar tekjur af. Allir skattar eru nú almennir og ekki markaðir tilteknum útgjöldum s.s. til vegamála. Framkvæmdir ríkisins eru nú allar fjármagnaðar af 20
Ekki er í drögunum tiltekinn kostnaður vegna banaslysa, en þau urðu 16 árið 2015. Slysin urðu fleiri 2016, 183 alvarleg slys, 785 slys með minni háttar meiðslum og 18 banaslys og því kostnaður það ár hærri. Í ljósi þess sem að framan greinir er heildarkostnaður samfélagsins af umferð umtalsvert meiri en þær tekjur sem ríkið hefur af bifreiðum í umferð. Með því er ekki verið að segja að nægilegum fjármunum sé varið til vegagerðar, enda stendur vilji Sjálfstæðisflokksins til þess að auka þau sbr. svar við spurningu 1. Hér er hins vegar bent á að nauðsynlegt er að horfa á heildarmyndina, en ekki bara hluta hennar. VIÐREISN Forsendur í spurningunni eru ekki réttar, og er bent á eftirfarandi svar við fyrirspurn þingmanns (https://www. althingi.is/altext/146/s/1075.html). VINSTRI GRÆN Nei. Vinstri græn leggja áherslu á að markaðir tekjustofnar renni óskiptir til samgöngumála. Það þarf að ráðast í markvissa uppbyggingu í vegamálum með sérstakri áherslu á viðhald.
2
b
Hefur þinn flokkur/framboð markað stefnu varðandi uppbyggingu vegakerfisins og fjárframlög úr ríkissjóði til vegamála á næstu árum? BJÖRT FRAMTÍÐ Já en án tiltekinna framlagsupplýsinga úr ríkissjóði. FLOKKUR FÓLKSINS Ekki í smátriðum en skilyrðislaust á að nýta þá tekjustofna sem markaðir eru til samgöngumála. FRAMSÓKN Stórauka þarf framlög til viðhalds, nýbygginga vega til að auka umferðaröryggi. Mikilvægt er að viðhald vegakerfisins sé í samræmi við álag og umferðarþunga hverju sinni. PÍRATAR Hvorki þingflokkur né grasrót Pírata hefur mótað sérstaka stefnu í þessum málaflokki. Það er þó alveg ljóst að
Píratar vilja veita meiri fjármunum í málaflokkinn. SAMFYLKINGIN Ástand vegakerfisins er orðið bágborið bæði vegna þess að viðhaldi er ekki sinnt og nýframkvæmdir eru litlar í sögulegu samhengi. Á sama tíma stóreykst álag á vegi landsins vegna fjölgunar ferðamanna. Samfylkingin leggur áherslu á að staðið verði við samgönguáætlun sem var samþykkt á Alþingi. Bættar samgöngur skila sér í margvíslegu formi til íbúa landsins. Betri og greiðari samgöngur styrkja atvinnuvegina, búsetuskilyrðin og stuðla að uppbyggingu og bættri líðan fólks á landssvæðum þar sem slæmar samgöngur bitna á lífsgæðum íbúa SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Sjálfstæðisflokkurinn telur að skoða þurfi sérstaklega annars konar fjármögnun samgöngumannvirkja en bein framlög af fjárlögum, svo sem með samstarfsfjármögnun. Allar framkvæmdir í samgöngumálum hafi aukið öryggi að leiðarljósi. Sjálfstæðisflokkurinn vill veita stórauknu fjármagni til viðhalds á vegakerfi landsins sem hefur látið á sjá, á undanförnum árum. Þannig var fjárframlag til viðhalds vegakerfisins aukið um 2,3 ma.kr. á þessu ári, eins og fyrr er getið. Aukin burðargeta vega, stytting vegalengda og fækkun einbreiðra brúa er jafnframt markmiðið VIÐREISN Viðreisn telur að framlög til samgöngumála séu góð fjárfesting og að mörg brýn verkefni bíði sem að sjálfsögðu þarf að forgangsraða. VINSTRI GRÆN Afar brýnt er að fjármagna að fullu samgönguáætlun til fjögurra ára (þál. nr. 65/145) sem Alþingi samþykkti mótatkvæðalaust haustið 2016 og fól það í sér að verja skyldi allt að 100 milljörðum kr. til samgöngubóta á gildistíma hennar. Samgöngukerfið hefur verið vanrækt á undanförnum árum að því marki að öryggi vegfarenda er teflt í tvísýnu verði ekki ráðist í nauðsynlegar úrbætur. Það er mat Vinstri grænna að fjárþörf til þessa málaflokks sé að
lágmarki 13 milljarðar kr., í nauðsynlegar nýbyggingar, öryggismál og viðhald á vegum á árinu 2017. Álagið á vegakerfið hefur stóraukist á undanförnum árum með þungaflutningnum og stórauknum ferðamannastraumi og vekur það furðu að fráfarandi ríkisstjórn hafi ekki hafið uppbyggingu í vegakerfinu þegar í upphafi síðasta kjörtímabils, þegar fjárhagslegt svigrúm hafði myndast til þess.
3
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2018 er gert ráð fyrir að leggja auknar álögur á bensín og dísilolíu með hækkun á vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi og kolefnisgjaldi. Næðu þessar hugmyndir fram að ganga hefðu þær í för með sér hækkun á hverjum dísilolíulítra um 21,90 krónur og hækkun um 8,60 krónur af hverjum bensínlítra til neytenda. Tekjur ríkissjóðs af bílaeldsneyti myndu hækka um ríflega 20% samanborið við fjárlög 2017. Eldsneytiskostnaður er veigamikill þáttur í framfærslu heimilanna og hækkun skatta á eldsneyti eykur verðbólgu með tilheyrandi hækkun á verðtryggðum skuldum og þyngri afborgunum. Vísitala neysluverðs gæti hækkað um 0,3% til 0,4% í upphafi nýs árs ef tillögur frumvarpsins um hækkun skatta á eldsneyti næðu fram að ganga. Hver er afstaða flokksins/framboðsins til þessara tillagna? BJÖRT FRAMTÍÐ Flokkurinn er sammála þessum tillögum sem nauðsynlegu skrefi til að hefja umbreytingu á bílaflota landsmanna og skapa hvata til að gera samgöngur umhverfisvænni. Það má svo alltaf ræða hvaða tölur eru nægjanlegar eða hóflegar í fyrstu skrefum. FLOKKUR FÓLKSINS Þessi hækkun er án viðunandi skýringa og við erum alfarið á móti því að ríkið afli sér viðbótartekna til óvissra nota “AF ÞVÍ BARA” FRAMSÓKN Hækkun eldsneytis mun draga úr kaupmætti, auka þrýsting verulega í 21
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
kjaraviðræðum sem framundan eru og síðast en ekki síst, hafa áhrif á vísitölu sem mun hækka verðtryggð húsnæðislán og þar með ýta verðbólgunni af stað. Þar til viðbótar má nefna að þetta er viðbótarskattur, landsbyggðarskattur, á þá sem þurfa búsetu sinnar vegna að aka lengra og meira en meðalakstur.
þessar tillögur. Alþekkt er að tillögur í fjárlagafrumvörpum nái ekki fram að ganga vegna andstöðu einstaka stjórnarliða. Vísast er að svo hefði farið í þessum efnum. Þar má vitna til ræðu fjármálaráðherra á Alþingi sem sagði að breytingar myndu verða á fjárlagafrumvarpinu í meðförum þingsins.
PÍRATAR Píratar eru alfarið á móti þessum tillögum, enda bitna þær harðast á þeim sem sízt skyldi. Þeir sem minnst fjárráðin hafa aka eldri bílum að jafnaði og hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að kaupa nýjar eða nýlegar umhverfisvænar bifreiðar. Hækkun vísitölu neysluverðs hefur mjög neikvæð áhrif á efnahag almennings. Betra væri að viðhalda þeim jákvæðu hvötum til að kaupa umhverfisvænar bifreiðar sem nú þegar eru til staðar og jafnvel að auka við þá með einhverju móti.
VIÐREISN Ekki öll frumvörpin eru komin fram sem liggja til grundvallar fjárlagafrumvarpinu, og verða ekki lögð fram fyrr en eftir stjórnarskipti. Nákvæmar útfærslur á krónutölum liggja því ekki fyrir að öllu leyti. Mikilvægt er að Ísland standi við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum og stefni að því að notkun olíu minnki sem hraðast. Geri Ísland það ekki, þarf ríkissjóður að greiða fjárhæðir sem nema milljörðum króna á hverju ári að kaupa losunarheimildir. Viðreisn vill að þau sem menga borgi. Samhliða breytingum á kolefnisgjaldi eru ríflegar ívilnanir til kaupa á rafbílum framlengdar og ríkið niðurgreiðir uppbyggingu hleðslustöðva í kringum landið, auk annarra aðgerða til að stemma stigu við hækkandi hitastigi á jörðinni. Mikilvægt er að þeir sem standa frammi fyrir vali um bíl hafi fjárhagslegan hvata til að velja sparneytnari bíla umfram eyðslumikla. Kostnaður við bíl sem ekið er 10.000 km mun hækka um 5-10.000 krónur á ári, lægri talan fyrir bensínbíla en sú hærri fyrir dísilbíla. Bent er á að á blaðsíðu 105 í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2018 er sagt að vísitala neysluverðs hækki um 0,08%, en ekki 0,3-0,4% eins og spurningin gengur út frá. Með lægri virðisaukaskatti árið 2019 lækkar vísitala neysluverðs um 0,5%, eða um 6 sinnum meira en hækkun bensíngjalda veldur. Verðtryggðar skuldir munu því lækka og afborganir sömuleiðis. Viðreisn leggur áherslu á nýtingu innlendra orkugjafa sem draga úr mengun, lækka orkukostnað heimilanna þannig að hann verður sáralítill og sparar þjóðarbúinu tugi milljarða í innflutningi.
SAMFYLKINGIN Þessar krónutöluhækkanir bitna harðast á tekjulágu fólki og þeim sem keyra mikið, fólki sem býr út á land. Þessi forgangsröðun er Samfylkingunni ekki að skapi. Ef ráðast á í þessar skattahækkanir verður að létta byrðum annarsstaðar af því fólki sem ber mestar byrðarnar. Hlýnun jarðar eru áhyggjuefni um allan heim, líka á Íslandi. Það eru ríkir þjóðarhagsmunir að íslensk stjórnvöld verði í hópi forysturíkja í loftslagsmálum á alþjóðavettvangi og vera í fararbroddi í aðgerðum innanlands gegn þessari vá. Það verður að gera með sanngjörnum hætti og ekki með tilviljanakenndri stefnu í skattamálum. Breytingar þarf að skoða í stærra samhengi sem tryggir árangur bæði í loftslagsmálum og í baráttunni fyrir betri kjörum almennings. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Ráðherrar og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins var með fyrirvara gagnvart tillögum fjármálaráðherra um auknar álögur á bensín og dísilolíu í fjárlagafrumvarpinu. Einnig gerðu einstaka þingmenn flokksins opinberlega fyrirvara við stuðning sinn við 22
VINSTRI GRÆN Umhverfissjónarmið þarf að hafa að leiðarljósi við allar ákvarðanir
í samgöngumálum þar sem mikil tækifæri eru í samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í þeim málaflokki. Orkuskipti í samgöngum eru eitt af mikilvægum verkefnum næstu ára og skoða þarf allar leiðir til að koma þeim á þannig að Ísland geti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar sínar þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda. Vinna þarf að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og hægt er. Grænir skattar eru eitt af verkfærunum til þess og þekkjast í öllum nágrannalöndum okkar.
4
Fram hafa komið vísbendingar um að eldsneytishækkanirnar komi verst niður á fjölskyldum sem hafa minni tekjur og íbúum á landsbyggðinni sem oft þurfa að sækja nauðsynjar, þjónustu og félagsstarf um langan veg. Hver er afstaða þíns flokks/framboðs til þessa? BJÖRT FRAMTÍÐ Það er ekki markmið Bjartrar framtíðar að leggja sérstakar álögur á tekjulægri fjölskyldur né íbúum landsbyggðarinnar. Björt Framtíð vill jafna aðstöðumun landsbyggðar og kjör tekjulægri hópa. Aðstöðumun þarf að jafna m.t.t. búsetu og heildrænnar nálgunar á samgöngur og samskipti. FLOKKUR FÓLKSINS Það er algjörlega vafalaust í okkar huga að þessar álögur hljóti að koma harðast niður á þeim sem lægstar hafa tekjurnar, þeim sem nú þegar eru að berjast við og undir fátæktarmörkum og með hreinum ólíkindum að stjórnvöld skuli enn og aftur ganga á undan með því fordæmi að ætla að ráðast á bág kjör þessara hópa. FRAMSÓKN Framsóknarflokkurinn telur ekki rétt að hækka álögur á alla landsmenn þegar möguleikar til notkunar á rafbílum eru ekki enn til staðar um land allt. PÍRATAR Píratar eru ósáttir við ójafnar álögur, hvaða nafni sem þær nefnast.
SAMFYLKINGIN Samfylkingin vill beita sanngjörnum aðferðum til þess að minnka kolefnisspor Íslendinga. Þær mega ekki bitna á tekjulágum fjölskyldum og landsbyggðinni. Við teljum þessa leið ekki sanngjarna. Snúa þarf frá þeirri þróun sem hefur átt sér stað frá aldamótun að skattbyrði hefur aukist á milli- og lágtekjufólk. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Eins og að framan segir gerði Sjálfstæðisflokkurinn fyrirvara við tillögu fjármálaráðherra í fjárlagafrumvarpinu um hækkun eldsneytisgjalda og má vera ljóst af framansögðu að þær hefðu ekki náð fram að ganga. VIÐREISN Eins og rakið er að ofan hafa aðgerðir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi þær afleiðingar að virðisaukaskattur á allar vörur lækkar um 1,5%, innflutningur rafbíla og annarra vistvænna bíla verður ríflega niðurgreiddur og hleðslustöðvar eru byggðar upp. Lykilatriðið fyrir fjölskyldur á landsbyggðinni, sem spurningin snýr að, er skattlagning per ekinn kílómeter. Meðfylgjandi mynd sýnir að skattlagningin hefur lækkað hratt á síðustu árum með
bættri tækni og eyðslugrennri bílum. Hvatinn til að kaupa eyðslugranna bíla verður enn meiri, hvort sem það eru rafbílar eða ekki. (Sjá töflu frá Viðreisn á næstu síðu). VINSTRI GRÆN Það er almenn stefna Vinstri-grænna að hlífa lág- og millitekjuhópum í skattkerfinu. Þá leggjum við ríka áherslu á að gripið verði til mótvægisaðgerða vegna olíugjalda gagnvart landsbyggðinni, þar sem bíllinn er oft og tíðum eini valkosturinn. Það þarf að efla almenningssamgöngur þannig að þær verði raunverulegur valkostur við einkabílinn og byggja upp innviði fyrir rafbílavæðingu samhliða hækkun olíugjalda þannig að græn markmið þessara skattahækkana náist. Þannig myndum við vilja sjá samhliða þessu skýrari skattaívilnanir til umhverfisvænni samgöngumáta og hraðari innviðauppbyggingu þannig að orkuskipti í samgöngum gangi hraðar fyrir sig.
5
A
Jón Gunnarsson samgönguráðherra og fleiri hafa talað fyrir hugmyndum um vegatolla á öllum samgöngu-
leiðum út frá höfuðborgarsvæðinu vegna brýnna tugmilljarða vegaframkvæmda. Um væri að ræða upptöku á vegum og eignum í eigu borgaranna til vegafélags/félaga sem vegfarendum væri leigður aðgangur að í nokkra áratugi. Hver er afstaða þíns flokks/framboðs til viðbótar skattlagningar á vegfarendur í formi vegatolla? BJÖRT FRAMTÍÐ Björt framtíð telur að skoða þurfi kosti þess að hefja gjaldtöku á helstu stofnbrautum út af höfuðborgarsvæðinu en í því felast tækifæri til að gera stórátak í uppbyggingu vegakerfisins þar sem umferðin er mest. Forsendan er að gjaldtakan standi undir framkvæmdunum og að vegafé verði ekki skert á móti heldur frekar aukið í og það notað til uppbyggingu samgagna á landsbyggðinni. FLOKKUR FÓLKSINS Framkvæmdir á umferðarmannvirkjum eru nú þegar inni í mörkuðum tekjustofnum og viðbótarskattlagningar þar með óþarfar.
23
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
FRAMSÓKN Framsóknarflokkurinn er ekki hlynntur vegatollum, þeir eru viðbótarskattur sem leggst þyngst á þá sem sækja vinnu daglega til höfuðborgarsvæðisins. PÍRATAR Píratar hafna alfarið þessum hugmyndum, þegar um er að ræða einu samgönguleiðirnar sem í boði eru. Píratar er þó jákvæðir gagnvart fjármögnun nýrra samgöngumannvirkja með vegtollum ef þeir hafa engin áhrif á þau samgöngumannvirki sem fyrir eru og ef samgöngumannvirki sem fjármögnuð eru með þeim hætti komast að fullu í eigu ríkisins þegar þau hafa verið greidd upp. Hvalfjarðargöng eru dæmi um vel heppnaða framkvæmd sem fjármögnuð var með vegtollum. SAMFYLKINGIN Samfylkingunni hugnast ekki fram komnar hugmyndir um veggjöld. Að setja veggjöld á þjóðveg 1, inn og út úr Reykjavík, er ekki hægt að bera saman við gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum eða Vaðlaheiðagöngum. Í þeim tilfellum báðum geta vegfarendur valið aðra leið. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Í upphafi skal áréttað að framangreind fullyrðing FÍB stenst ekki skoðun. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skipaði starfshóp til að meta kosti þess að byggja með hraði upp helstu stofnleiðir út frá höfuðborginni og að þær framkvæmdir yrðu fjármagnaðar með veggjöldum. Í tillögum sem hópurinn skilaði af sér nýverið kemur fram að unnt væri að tvöfalda leiðina til 24
Keflavíkurflugvallar, veginn austur fyrir Selfoss með nýrri brú á Ölfusá og leiðina upp í Borgarnes að meðtöldum nýjum Hvalfjarðargöngum á 6 – 8 árum með því að innheimta veggjöld til fjölnotenda upp á allt að 140 kr. á hverri leið og myndu veggjöldin borga upp framkvæmdirnar á 20 árum. Fáskiptisnotendur eins og erlendir ferðamenn myndu t.a.m. greiða mun hærra gjald, en mikil fjölgun þeirra hefur valdið stórauknu álagi á vegakerfi landsmanna. Þessi vinna var sett af stað í ljósi þess að afar brýnt er að bæta vegakerfið á þessum leiðum, enda beinn kostnaður vegna umferðarslysa á áðurnefndum vegaköflum 3,1 ma.kr. á síðasta ári einu. Hugmyndir um að leita fjölbreyttari leiða til fjármögnunar samgöngukerfisins eru í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins sem og samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ástæðan fyrir því að ráðist var í þessa vinnu var sú að menn hefðu fyrir framan sig tillögu að lausn afmarkaðs verkefnis sem taka mætti afstöðu til á grundvelli faglegrar og málefnalegrar umræðu. Í framtíðinni kæmi síðan til álita hvort yfirfæra mætti þessa aðferðafræði á önnur verkefni í öðrum landshlutum, til þess að greiða fyrir umferð, auka umferðaröryggi og hraða framkvæmdum. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til þessara tillagna er almennt jákvæð, en engar tillögur hafa þó verið lagðar fyrir ríkisstjórn um þetta. Tillögur áðurnefnds starfshóps verða mögulega unnar áfram þegar Sjálfstæðisflokkurinn tekur næst sæti í ríkisstjórn og fer með forræði samgöngumála. Áhersla á aukin fjárframlög til heilbrigðiskerfisins sem almenn samstaða er um, þýðir að aukið svigrúm í
ríkisfjármálum verður einkum nýtt til þess málaflokks. Ef miðað er við að núverandi fjárveitingar til samgöngumála skv. fjármálaáætlun haldi sér óbreyttar inn í framtíðina, er líklegt að það taki allt að 30 árum að ljúka endurbótum á stofnvegakerfinu út frá Reykjavík. Spurningin sem bifreiðaeigendur hljóta að velta fyrir sér er sú, hvort það sé þess virði að fá nauðsynlegar vegabætur fyrr en ella, enda mun sparnaður koma fram á móti veggjöldum í styttri ferðatíma, minni eldsneytiseyðslu og færri slysum – með öllum þeim kostnaði og hörmungum sem þeim fylgja. Rétt er að árétta að Sjálfstæðisflokkurinn hefur talið þörf á að einfalda og fækka þeim gjöldum sem fjallað er um í svari við spurningu tvö. Umræða um vegatolla þarf að taka mið af þessum gjöldum. VIÐREISN Flokkurinn hefur ekki tekið afstöðu til þeirra tillagna sem samgönguráðherra hefur skoðað enda fremur nýframkomnar. VINSTRI GRÆN Vinstri græn telja samgöngukerfið vera afar mikilvægan þátt í öflugum innviðum samfélagsins og það á ekki að vera í einkarekstri. Dreifðar byggðir þurfa að reiða sig á greiðar samgöngur en ekki síður er brýnt að á höfuðborgarsvæðinu sé samgöngukerfið þannig að það styðji við fjölbreytta ferðamáta og uppbygging þess taki mið af markmiðum í losun gróðurhúsalofttegunda. Vegtollar geta ekki komið í staðinn fyrir eðlilega ráðstöfun opinbers fjár til uppbyggingar sameiginlegra kerfa, eins og vegakerfisins, sem á að fjármagna til dæmis með áðurnefndum olíugjöldum. Þeir geta þó átt við í undantekningartilfellum þar sem vegfarendur eiga val um aðrar leiðir.
5
b
Ef flokkurinn er jákvæður varðandi álagningu vegatolla telur hann þá að leggja þurfi áætlanir um breytingar fyrir þjóðina t.d. með þjóðaratkvæðagreiðslu eða með yfirlýsingu um hreina afstöðu fyrir kosningar til Alþingis?
BJÖRT FRAMTÍÐ Björt framtíð vill kanna kostina og telur að svo stöddu ekki nauðsynlegt að leggja tillögur um mögulegar breytingar í dóm þjóðarinnar. FLOKKUR FÓLKSINS Ósvarað FRAMSÓKN Framsóknarflokkurinn er ekki hlynntur vegatollum, þeir eru viðbótarskattur sem leggst þyngst á þá sem sækja vinnu daglega til höfuðborgarsvæðisins. PÍRATAR Píratar eru eingöngu jákvæðir gagnvart fjármögnun nýrra samgöngumannvirkja með vegtollum, ef hún hefur engin áhrif á þau samgöngumannvirki sem fyrir eru og ef samgöngumannvirki sem fjármögnuð eru með þeim hætti komast að fullu í eigu ríkisins þegar þau hafa verið greidd upp. Ef upp kemur sú hugmynd að fjármagna samgöngumannvirki með vegtollum, og ekkert annað samgöngumannvirki, gjaldfrjálst, er í boði, skal skilyrðislaust bera slíka hugmynd undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. SAMFYLKINGIN Við erum ekki jákvæð varðandi álagningu vegtolla. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Eins og að framan er sagt er Sjálfstæðisflokkurinn því fylgjandi að leitað verði nýrra leiða til hraðari uppbyggingar samgöngukerfisins til að stuðla að greiðari umferð, styttingu ferðatíma og stórauknu umferðaröryggi. Í kosningum til Alþingis leggur flokkurinn fram stefnu sína fyrir kjósendur og með atkvæði sínu gefa þeir flokknum umboð sitt til að vinna að framgangi yfirlýstrar stefnu sinnar. VIÐREISN Flokkurinn hefur ekki tekið afstöðu til þeirra tillagna sem samgönguráðherra hefur skoðað enda fremur nýframkomnar. VINSTRI GRÆN Eðlilegt er að grundvallar kerfisbreytingar verði unnar í sátt og samræðum við þjóðina. 25
BÍLAPRÓFUN FÍB FÍB 2017/2018 VETRARDEKKJAKÖNNUN
Bestu negldu og ónegldu vetrarhjólbarðarnir 2017:
VETUR KONUNGUR KEMUR
H
in árlega vetrardekkjaprófun sem birtist ávallt á þessum tíma árs liggur nú fyrir. Nú er vetur konungur á leiðinni og því ærin ástæða til að huga að ástandi hjólbarða en þeir eru einn af mikilvægustu öryggisþáttum bílsins. Dekkjaframleiðendurnir Continental, Nokian og Goodyear koma eins og jafnan vel út úr þessari prófun ásamt fleirum eins og Hankook. Þeir framleiðendur, sem skoruðu hvað hæst í prófuninni, hafa lengi verið að þróa dekk sem vinna vel við erfiðar aðstæður sem lögð var þung áhersla á í þessari könnun. Kóreanski framleiðandinn Hankook tekur annað sætið hvað negldu dekkin áhrærir og Sava dekkin frá Póllandi koma mjög á óvart og lentu í öðru sæti yfir ónegldu dekkin. Continental kemur einstaklega vel frá þessari stóru vetrarprófun og hafnar í efsta sæti, bæði hvað varðar negldu og ónegldu dekkin. Í prófuninni koma tvær dekkjategundir frá Kóreu og Póllandi mjög á óvart þegar lítur að gæðum. Prófunin að þessu sinni undirstrikar að dekkjaframleiðendur leggja mun meiri áhersla á en áður að þróa hágæða vetrardekk fyrir norrænar aðstæður. 26
Bæði Hankook og Sava koma ennfremur vel út í verðsamanburði og gætu því verið góður kostur fyrir kaupendur. Dekkin frá þessum framleiðendum stóðust prófanir í akstri í snjó og á ís. Framboð á dekkjum er meira núna en oft áður. Samkeppnin á þessu markaði er alltaf að harðna, kröfurnar eru meiri, kaupendur fylgjast vel með
og hafa meiri aðgang að upplýsingum sem auðvelda alla ákvarðanatöku. Það eru góðar fréttir fyrir kaupendur að úrvalið er að aukast og hægt er að finna gæða-vetrarhjólbarða á góðu verði sem ekki var reyndin fyrir nokkrum árum. Það skiptir máli í þessu sem öðru er að gefa sér tíma og skoða vel það sem í boði er. Þegar upp er staðið geta neytendur sparað sér verulegar upphæðir með
því að skoða hvað hjólbarðaverkstæðin eru að bjóða. Það auðveldar þessa vinnu að flest þeirra eru með góðar upplýsingar á heimasíðum sínum og það sparar mikinn tíma. Einnig er félagsmönnum í FÍB bent á að að nýta sér afslætti sem FÍB hefur samið um við marga hjólbarðasala í landinu. Mikill munur getur verið á vetrardekkjum undir bílinn á milli hjólbarðasala. Munurinn getur numið þúsundum króna og því getur það skipt fjölskylduna verulegu máli að skoða þessi mál gaumgæfilega áður en farið er út í dekkjakaupin. Um allan heim hefur þróunin verið sú síðustu ár að hjólbarðasalan fer í auknum mæli fram á netinu. Evrópubúar hafa verið hvað duglegastir að nýta sér þetta og hérlendis fer netverslunum stöðugt fjölgandi. Dekkin eru það stór öryggisþáttur að brýnt er að skoða vel alla þá kosti sem í boði eru. Á Íslandi geta aðstæður verið ansi misjafnar eftir svæðum. Sumstaðar eru vegir snævi þaktir og svell liggur yfir þeim lungann úr vetrinum. Á sama tíma eru vegir á sunnanverðu landi oft meira og minna greiðfærir. Þetta
ÞETTA ER GERT Í VETRARDEKKJAPRÓFINU Helstu matsþættir vetrardekkjaprófana FÍB blaðsins eru hemlun, hröðun, aksturseiginleikar, aksturstilfinning, veggnýr, rásfesta og núningsmótstaða hjólbarðanna. Hemlun
Bíll í prófunum
VW GOLF 205/55 R16
verða neytendur að hafa í huga við hjólbarðakaupin. Þessi vetrarkönnun sýnir enn eina ferðina að þar sem ísing og svell liggja á vegum þá er langöruggast að vera á negldum dekkjum. Í könnunni kemur einnig fram að neytendur sem búa á svæði þar sem er sjaldan snjór eða ís á vegum getur reynst vel að kaupa dekk sem virka best á blautu malbiki. Í könnuninni að þessu sinni voru kínversk dekk prófuð sem ennþá eiga nokkuð í land að blanda sér í baráttuna við bestu dekkin. Gæði þessara dekkja eru samt ávallt að aukast og þau koma vel út í öllum verðsamanburði. Annars er það eftirtektavert og kemur fram í könnuninni að stórir dekkjaframleiðendur eru í vaxandi mæli að byggja verksmiðjur í Rússlandi með það markmið að spara allan framleiðslukostnað. Eins og áður er afar brýnt að dekkjakaupendur einblíni ekki um of á niðurstöður úr könnuninni því ekki er víst að dekkin sem koma best út, henti best við staðbundin akstursskilyrði í hverju landi. Kaupendur eiga alltaf að velja dekk með hliðsjón af akstursskilyrðum sem þeir eru vanir og eru ríkjandi á þeirra svæðum.
Hemlunarvegalengd er mæld í snjó, ís, í bleytu og á þurru malbiki. Prófað er margsinnis í hverju þessara atriða við mismunandi hitastig. Niðurstöðurnar eru þannig meðaltal 15-20 mælinga eftir tvo til þrjá tilraunadaga. Á ís er fundin vegalengdin sem bíllinn fer frá því hemlun hefst á 50 km hraða þar til hann hefur numið staðar. Á ís og votu malbiki er upphafshraðinn 80 km/klst og á þurru malbiki er upphafshraðinn 90 km/klst. Hemlunarprófin á ís og í snjó eru gerð bæði utan- og innanhúss því að innanhúss er hægt að sjórna bæði hita- og loftraka og útiloka áhrif veðurs á niðurstöður. Hröðun Grip hjólbarðanna á ís og í snjó er metið með því að auka hraða bílsins eins mikið og hægt er og mæla tímann sem það tekur að ná tilteknum hraða. Á ís er tímalengdin milli 5 upp í 20 km/klst. mæld og í snjó milli 5-35 km hraða. Líkt og í hemlunarprófunum er hröðunin mælt aftur og aftur við mismunandi hitastig, bæði innanhúss og utandyra. Aksturseiginleikar Almennir aksturseiginleikar hjólbarðanna eru metnir út frá brautartímum á malbikaðri tilraunabraut sem ýmist er auð og þurr, rennblaut, ísilögð eða snævi þakin. Í þessum brautarakstri er ekið þannig að það reynir á dekkin í hröðun, hemlun og hliðargripi, enda er markmiðið það að komast brautarhringinn á sem skemmstum tíma. Ekið er margsinnis um brautina og margir ökumenn aka. Uppgefnar niðurstöður eru meðal brautartími allra ökuferðanna.
Aksturstilfinning Auk fyrrnefndra brautartíma skrá allir ökumennirnir persónulegt mat sitt á frammistöðu dekkjanna og hvernig þeim fannst hver dekkjategund standa sig og þá sérstaklega hvernig þeim fannst dekkið vera öruggt og traust í akstrinum við mismunandi aðstæður, hversu fljótt og/eða hve skyndilega þau misstu veggripið og hversu erfitt eða auðvelt það var að ná aftur valdi á bílnum í háskaaðstæðum eins og komið geta upp í daglegum akstri. Þessir prófþættir eru blindpróf; þ.e.a.s.ökumennirnir vita aldrei hvaða dekkjategund er undir bílnum hverju sinni. Veggnýr Veggnýr dekkjanna er bæði metinn út frá beinni hávaðamælingu og huglægu mati ökumannanna og farþega í aftursæti. Ekið er á grófu vegyfirborði. Þetta er blindpróf og hin uppgefna niðurstaða er meðaltal bæði mælinganna og mats ökumannanna og farþeganna. Rásfesta Ekið er á snjó/ísi þöktum vegi sem veghefill hefur skrapað rásir í ísinn og snjóinn. Þrír ökumenn síðan óháð hverjum öðrum rásfestu dekkjanna í þessum aðstæðum og eru niðurstöðurnar meðaltal af mati þeirra. Þetta er blindpróf. Ökumennirnir vita ekki hvaða dekkjategund er undir bílnum hverju sinni. Núningsmótstaða Núningsmótstaðan er mæld utandyra þannig að bíllinn er tekinn úr gír á 80 km hraða og látinn fríhjóla uns hraðinn er fallinn niður í 40. Prófið fer fram við tvennskonar mismunandi hitastig og niðurstaðan er umreiknuð í prósentu-hlutfallslega aukningu eldsneytiseyðslu miðað við það dekk sem ,,fríhjólaði” lengst og hefur þannig minnstu 27
BÍLAPRÓFUN FÍB FÍB 2017/2018 VETRARDEKKJAKÖNNUN
NEGLDIR VETRARHJÓLBARÐAR
205/55 R16
8,8
8,7
8,4
Continental IceContact 2
Hankook WinterI*PikeRS+ Nokian Hakkapeliitta 9
Continental nagladekkið er í efsta sæti í þessari könnun. Það hlýtur hæstu einkunnir í öllum greinum aksturs í vetrarfæri, hvort heldur í snjó eða á ís. Stendur sig einnig vel á votum vegum. Lítillega háværara en hin bestu negldu dekkin.
Hankook nagladekkið kemur verulega á óvart með því að skjótast upp í annaða sætið. Það hefur heldur lengri hemlunarveglengd á ís og snjó en Continental í fyrsta sætinu en hefur sérstaklega trygga góða aksturseiginleika í snjó og hálku sem veita góða öryggistilfinningu. Það er vel rásfast en fremur hávært.
Fjöldi nagla:190 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Nei Innhlið/úthlið:Já Framleiðsludags: 43. vika 2016 Framleiðsluland:Þýskaland
Ónegld dekk HEMLUN Á ÍS
Teg. Hemlunarlengd (m)
Fjöldi nagla: 170 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði: 94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 2. vika 2017 Framleiðsluland: Kórea Söluaðili: Sólning ehf Verð á 4 dekkjum: 63.462.með nöglum Söluaðili: Dekkjasalan ehf. Verð á 4 dekkjum: 66.000.með nöglum
8,3
4
Goodyear Ultragrip Ice Arctic
Nokian er nú sem fyrr með ágæta eiginleika til aksturs í Fær bestu einkunn fyrir snjó og á ís. Í akstri í bleytu hemlun í snjó og á ís. er það hins vegar í meðallagi. Missir hliðargrip fremur Hemlar vel á þurru malbiki snögglega á ís sem gefur fremur ótrygga tilfinningu og hemlunarvegalengdin í akstri. Hemlar sérlega er stutt. Full mjúkt í akstri vel í snjó og ágætlega á sem kemur lítillega niður votu malbiki en veitir á svörun við stýrinu í miðlungs aksturstilfinningu snöggum beygjum. Í (öryggistilfinningu). háværara lagi. Rásfesta er góð. Fjöldi nagla:190 Fjöldi nagla:130 Hraðaþol:T (190 km/t) Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Innhliðhlið:Nei Framleiðsludags: Framleiðsludags: 1. vika 2017 Framleiðsluland:Finnland 48. vika 2016 Framleiðsluland: Pólland Söluaðili: MAX1 Verð á 4 dekkjum: 99.960.- Söluaðili: Klettur Verð á 4 dekkjum: 99.200 með nöglum með nöglum
8,3
5
Pirelli Ice Zero Lítilsháttar misræmi í afköstum í snjó og ís. Veggrip í hröðun þar er ágætt en hemlunarvegalengdin er meiri en hjá þeim bestu í þeim efnum. Hinsvegar mjög jafngott í öllum akstri í bleytu og gefur góða og örugga aksturstilfinningu á þurrum og auðum vegi. Vel rásfast en í háværara lagi. Fjöldi nagla:130 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðhlið:Nei Framleiðsludags: 43. vika 2016 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: Nesdekk Verð á 4 dekkjum: 79.960 með nöglum
Negld dekk HRÖÐUN Á ÍS
Teg. Tími (sek.) 8 sek
SVONA ER STIGAGJÖFIN Í þessari vetrarhjólbarðaprófun eru 26 dekk prófuð og vegin og metin. Megin prófunarflokkar eru fimm talsins og undirþættir innan hvers meginflokks eru mis margir eða allt að fjórir. Vægi meginflokkanna í heildareinkunn hvers dekks er einnig misjafnt eða 15-40 prósent: Ís – vægi 40 prósent Hemlun, hröðun, akstur á braut og aksturstilfinning. 10 prósent hver þáttur. Snjór – vægi 20 prósent Hemlun, hröðun, akstur á braut og aksturstilfinning. 5 prósent hver þáttur. Blautt malbik – vægi 15 prósent Hemlun, Akstur á braut og aksturstilfinning. 5 prósent hver þáttur. Þurrt malbik –vægi 15 prósent Hemlun og aksturstilfinning. 5 prósent hver þáttur. Þægindi –vægi 15 prósent Rásfesta, veggnýr og núningsmótstaða. 5 prósent hver þáttur.
28
8,2
6
8,2
7
8,1
8
8,1
9
7,6
10
Vredestein Wintrac Ice
Yokohama Ice Guard
Bridgestone Noranza 001
Gislaved Nordfrost 200
Michelin X-Ice North 3
Engir sérstakir veikleikar heldur er þetta dekk mjög jafngott í öllum greinum aksturs í snjó þótt hemlunarvegalengd sé lengri en hjá þeim bestu. Allt hliðargrip (í beygjum) er með ágætum og tapast ekki snögglega. Ágætt í bleytu einnig og rásfast.
Hefur ágætis veggrip í hröðun á snjó og ís en hefur þar heldur lengri hemlunarvegalengd en þau bestu. Hliðargripið í snjó mætti vera betra, en þó tapast það ekki snögglega heldur er aðdragandinn nokkur þannig að ráðrúm er til að bregðast við í tæka tíð. Gott á blautu malbiki. Nokkuð hávært.
Þessi nýja árgerð Bridgestone er heldur síðri en árgerð síðasta árs. Hemlunarvegalengdin er meiri á ís og snjó. En það er engu að síður gott vetrardekk sem gefur góða og trygga aksturstilfinningu. Grip mætti vera betra á votu malbiki en lág núningsmótstaða skilar sér í minni eldsneytiseyðslu.
X-Ice North 3 er með mjög fáa nagla í slitfletinum og það skilar sér í slakri hemlun og hröðun á ís. Í snjó skipta naglar minna máli og í snjó er það prýðilegt og gefur trygga aksturstilfinningu. Besta dekkið á votu malbiki.
Fjöldi nagla:172 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 7. vika 2017 Framleiðsluland:Rússland Söluaðili: Dekkjahöllin Verð á 4 dekkjum: 89.872 með nöglum
Fjöldi nagla:190 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 3. vika 2017 Framleiðsluland:Rússland Söluaðili: Betra Grip Verð á 4 dekkjum: 117.616 með nöglum
Gislaved er ódýrari dekkjagerð frá Continental, eins konar meðalhjólbarði og það kemur fram í eiginleikum þess á ís og snjó – þar er það í meðallagi. Hemlun og hröðun á snjó og ís er hins vegar hvorttveggja með ágætum. Í öllum akstri virkar það tryggt og öruggt, ekki síst á blautu malbiki. Eitt hljóðlátasta neglda vetrardekkið.
7,3
7,1
Fjöldi nagla:170 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 7. vika 2017 Framleiðsluland: Holland Söluaðili: BJB Verð á 4 dekkjum: 69.500 með nöglum
7,6
11
12
13
Fjöldi nagla: 130 Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Nei Innhliðúthlið:Já Framleiðsludags. 43. vika 2016 Framleiðsluland: Þýskaland
7,0
14
Fjöldi nagla:96 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 35. vika 2016 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: N1 Verð á 4 dekkjum: 87.960 með nöglum Söluaðili: Costco Verð á 4 dekkjum: 71.596 með nöglum (umfelgun innfalin í verði Costco)
7,6
15
Sava Eskimo Stud
Triangle Icelink
Nankang Ice Activa SW-8
Falken Espia Ice
Kumho Wintercraft Ice
Verð þessa pólska dekks er hagstætt, en það er samt mjög þokkalegt dekk, reyndar er það eitt hið öruggasta á blautu malbiki. Hemlar vel í snjó en gefur ekki af sér eins trygga aksturstilfinningu eins og mörg hinna. Beygjugrip þess er ekki nógu traust og afturhjólin missa of fljótt veggripið í beygjum. Rásfesta og veggnýr eru í meðallagi.
Ódýrt kínverskt dekk sem vinnur engin stórvirki í vetrarfærinu, snjó og ís. Hefur eina lengstu hemlunarvegalengdina á ís og hefur slakt hliðargrip. En þrátt fyrir það er það eitt hinna öruggustu á blautu malbiki og hefur góða rásfestu á vondum vegum. Lágvært.
Slappt á ís og í snjó. Kosturinn er þó að dekkið er jafn slakt í öllum öðrum greinum líka þannig að fátt ætti að koma á óvart í akstri. Á votu malbiki er það þó ívið skárra en á ísnum og snjónum og skást á þurru auðu malbiki þar sem það er reyndar ágætt.
Framleiðandi Falken Espia Ice gumar af því að hafa þróað þetta vetrardekk sérstaklega fyrir erfiðar vetraraðstæður Norðurslóða. Kannski fór eitthvað úrskeiðis hjá honum. Hröðun á ís er þó ágæt og hemlun í snjó góð, en hliðargrip er ótryggt og tapast auðveldlega, sem skilur eftir sig ótrygga aksturstilfinningu. Gott á votum vegi og rásfast á skröpuðu vegyfirborði. Hávært.
Í akstri á ís og snjó, þar sem mest liggur við að hafa sem best veggrip, dugar Kumho nagladekkið hvað verst. Hemlunarvegalengd á ís er löng og jafnvel enn lengri í snjó. Beygjugripið er auk þess losaralegt og tapast fljótt og snögglega. Enda þótt það sé ágætt á votu malbiki, þá stendur það vart undir nafni sem vetrardekk. En í akstri á auðum vegum er það hljóðlátt og nokkuð rásfast.
Fjöldi nagla: 96 Hraðaþol: T (190 km/t) Burðarþolskóði: 91 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 25. vika 2016 Framleiðsluland: Pólland
Fjöldi nagla: 128 Hraðaþol: T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 19. vika 2016 Framleiðsluland: Kína
Fjöldi nagla:170 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 7. vika 2017 Framleiðsluland: Kína Söluaðili: Sólning ehf Verð á 4 dekkjum: 40.712 með nöglum
Fjöldi nagla: 116 Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Nei Innhliðúthlið:Já Framleiðsludags. 16. vika 2016 Framleiðsluland: Tyrkland
Fjöldi nagla:150 Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:91 Snúningsstefna:Já Innhliðúthlið:Nei Framleiðsludags: 6. vika 2017 Framleiðsluland: Kórea
29
BÍLAPRÓFUN FÍB FÍB 2017/2018 VETRARDEKKJAKÖNNUN
ÓNEGLDIR VETRARHJÓLBARÐAR
205/55 R16
8,1
7,6
7,5
7,5
Continental Conti VikingContact
Sava Eskimo Ice
Goodyear ultra Grip Ice 2
Nokian Hakkapeliitta R2
Hankook Winter I*Cept IZ 2
Sava er ódýrt dekk en hefur engu að síður góða vetrareiginleika sem koma dálítið á óvart. Það hegðar sér fyrirsjáanlega á ís og snjó. Hemlunarvegalengd í snjó er stutt en dálítið lengri á ís. Er stöðugt og með traust veggrip í bleytu, sem erfitt hefur reynst að samræma við góða eiginleika í vetrarfærinu.
Á ís er bæði hemlun og hröðun Goodyear með ágætum. Beygjugripið mætti þó að sönnu vera aðeins betra. Virkar mjög stöðugt og öruggt í akstri í snjó og tekur ekki upp á neinu óþægilegu eða óvæntu. Á malbiki virkar stýringin nokkuð mjúk, en í neyðartilvikum kemur samt í ljós að veggripið er með ágætum.
Eins og lengstum áður er Nokian með gott og öruggt grip í snjó og á ís. Að vísu eru hemlunarvegalengdir ívið lengri en hjá þeim bestu ónegldu en virkar engu að síður traust og öruggt í akstri. En á auðu malbiki er það hinsvegar ekkert sérstakt og á því tapar það. Verst er að í bleytu er hemlunarvegalengdin löng.
Eiginleikar á ís eru nærri því eins og best gerist. Í snjó er það hinsvegar í góðu meðallagi. Þar verður stýringin reikul en virkar engu að síður ágætlega í neyðartilvikum. Á auðu malbiki eru eiginleikarnir mjög jafngóðir nema að finna má að því að í neyðarakstri getur beygjugrip tapast snögglega.
Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 29. vika 2016 Framleiðslul: Pólland Söluaðili: Klettur Verð á 4 dekkjum: 51.600
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 41. vika 2016 Framleiðsluland:Pólland
Hraðaþol:R (170 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags 5. vika 2017 Framleiðsluland: Finnland Söluaðili: MAX1 Verð á 4 dekkjum: 99.960-
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 1. vika 2017 Framleiðsluland: Kórea Söluaðili: Sólning ehf Verð á 4 dekkjum: 59.884
Hemlar afbragðsvel á ís miðað við óneglt vetrardekk og hefur gott beygjugrip. Hefur góða og jafna eiginleika í snjó og skilar tryggri aksturstilfinningu. Erfitt hefur hingað til reynst að samræma góða eiginleika í snjó og góða eiginleika á auðum vegum, ekki síst votum. Það hefur tekist hér því að Viking Contact er ágætt í bleytu og missir ekki svo glatt gripið þótt ýmislegt gangi á. Lág núningsmótstaða. Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Nei Innhlið/úthlið:Já Framleiðsludags: 41. vika 2016 Framleiðslul:Þýskaland
Ónegld dekk
30
7,4
5
Negld dekk
HEMLAÐ Á VOTU MALBIKI Tegund Hemlunarlengd (m)
Söluaðili: Klettur Verð á 4 dekkjum: 111.600
4
AKSTURSBRAUT – BLAUTT MALBIK Tegund Brautartími (sek.)
HEMLUN Á ÞURRU MALBIKI Teg. Hemlunarvegal. (m)
7,4
6
7,2
7
7,1
8
6,7
9
Michelin X-Ice XI3
Bridgestone Blizzak WS80
Pirelli Ice Zero FR
Landsail Winter Lander
Michelin er í það heila tekið ágætt í snjó og á ís þótt það standist ekki þeim allra bestu snúning. En kostir þess eru mjög jafngóðir og öruggir þannig að fátt getur komið á óvart. Í bleytu er beygjugrip þess gott og stýringin verður örugg. Eins og alltaf hjá Michelin haldast góðir aksturseiginleikar lengi þótt dekkið slitni og slitþolið er mjög gott.
Bridgestone er meðal þeirra allra bestu á ís og þar hefur samvinnan við Nokian sjálfsagt skilað sér. Hemlun í snjó er allgóð þótt ekki sé hún meðal þess allra besta. Þá mætti veggrip í bleytu vera betra. En almennt sagt gefur akstur á Bridgestone góða og trygga aksturstilfinningu
Eiginleikar Pirelli á ís eru veikir. Þar er hemlunarvegalengdin löng auk þess sem beygjugrip er veikara en hjá þeim bestu. Betra í snjó. Þar hefur það gott grip í hemlun, hröðun og í beygjum og virkar öruggt í akstri. Einnig gott á votu malbiki og ágætt á þurru þar sem það er það allra besta.
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 47. vika 2016 Framleiðsluland: Japan Söluaðili: Betra Grip Verð á 4 dekkjum: 119.512
Hraðaþol:T (190 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðslud:46. vika 2016 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: Nesdekk Verð á 4 dekkjum: 79.960
Þetta er hið besta af þremur ódýrum ónegldum vetrardekkjum frá Kína í þessari könnun. Það hemlar ágætlega á ís en hefur veikt beygjugrip og tapar veggripi of fljótt á afturhjólum í beygjum. Það gerir erfitt fyrir ökumann að hafa fulla stjórn á bílnum. Aksturstilfinningin í snjó er betri. Á auðum blautum vegi hegðar það sér svipað og á ísnum.
Hraðaþol:H (210 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 6. vika 2016 Framleiðsluland: Rússland Söluaðili: N1 Verð á 4 dekkjum: 87.960 Söluaðili: Costco Verð á 4 dekkjum: 70.396 (umfelgun innfalin í verði Costco)
VEGGNÝR
Tegund Einkunn
NÚNINGSMÓTSTAÐA
Teg. Hemlunarvegal. (m)
Hraðaþol:H (210 km/t) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei015 Framleiðslud:08. vika 2017 Framleiðsluland: Kína
6,3
10
Linglong Green-Max Winter Ice I-15 Ófullnægjandi veggrip á ís og ónóg hemlun en sérstaklega er vont hversu beygjugripið er lítið og tapast fyrirvaralaust. Hemlun í snjó er einnig ónóg en í snjónum er beygjugripið þó skárra og bætir það aðeins úr skák. Gott á þurru malbiki en í bleytu tapar það beygjugripiof brátt og of snemma. Hraðaþol:T (190 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsátt:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 8. vika 2017 Framleiðsluland: Kína
6,2
11
Nankang Ice Activa Ice-1 Þriðja ódýra óneglda kínverska vetrardekkið í þessari könnun. Það hentar illa aðstæðum á erfiðum vetrarvegum norðurslóða. Hemlun á ís er ekki góð og beygjugrip tapast þar of skjótt og mjög óvænt. Svipað gerist á votu malbiki og er auðvitað afar varasamt í neyðartilvikum þegar snöggbeygja þarf t.d.fram hjá hindrun. En það spjarar sig viðunandi í snjónum. Hraðaþol:Q (160 km/h) Burðarþolskóði:94 Snúningsstefna:Já Innhlið/úthlið:Nei Framleiðsludags: 7. vika 2017 Framleiðsluland: Kína Söluaðili: Sólning ehf Verð á 4 dekkjum: 39.992
31
BÍLAPRÓFUN FÍB FÍB 2017/2018 VETRARDEKKJAKÖNNUN
ÍS Á AKSTURSBRAUT Teg. Brautartími (sek.)
Ónegld dekk HEMLUN Í SNJÓ
Teg. Hemlunarvegal. (m)
32
Negld dekk HRÖÐUN Í SNJÓ Teg. Tími (sek.)
SNJÓR Á AKSTURSBRAUT Teg. Brautartími (sek.)
M
iðvikudaginn 11. október kannaði FÍB verð á umfelgun hjá 40 dekkjaverkstæðum vítt og breitt um landið. Hjá flestum fyrirtækjunum eða 24 er verið að bjóða sama verð fyrir þjónustuna núna og í vorkönnun FÍB 2017, Átta fyrirtæki lækka verðið frá því vor og átta hækka. Spurt var: Hvað kostar umfelgun og jafnvægisstilling á fjórum 16 tommu álfelgum. Beðið var um listaverð án allra afslátta eða sérkjara eins og t.d. FÍB afsláttar, eldri borgara afsláttar o.s.frv. Það skal tekið tekið fram að sum fyrirtækin í könnunni gefa enga afslætti á þau verð sem gefin eru upp. Miðið var við dekkjaskipti á Toyota Corolla með hjólastærð 205/55 R16, sem er ein algengasta hjóla- og dekkjastærð fólksbíla á íslenska markaðnum. Afslættir til FÍB félaga af hjólbarðaþjónustu Í könnunni á þessu hausti var lægsta verðið gefið upp hjá Titancar í Kópavogi eða 5.000 krónur. Hæst var það hins vegar í N1 9.493 krónur (sjá nánar í töflu). Munur á hæsta og lægsta verði er 90% Þann 1. nóvember gengur hinn formlegi vetrardekkjatími í garð, þegar löglegt verður að aka á negldum vetrarhjólbörum. Samkvæmt hefðinni má reikna með mikilli ös á hjólbarðaverkstæðum á þessu degi sem að þessu sinni ber upp á mið-vikudag. Eins og alltaf má síðan reikna með að mikið verði að gera í hjólbarðaskiptum þegar fyrsti snjórinn fellur. Könnunin fór fram í gegnum síma. Spurt var um listaverð á vinnu við umfelgun og jafnvægisstillingu á fjórum 16 tommu álfelgum. Eingöngu var kannað verð á þessari tegund bifreiðaþjónustu. Ekki var lagt mat á gæði þjónustunnar og mögulegan mun á henni. Einvörðungu var miðað við álfelgur enda eru þær undir stærri hluta fólksbíla.
33
EURO RAP VEGRÝNIN Á ÍSLANDI BÍLAPRÓFUN FÍB
EuroRAP verkefnið skoðar hina ýmsa vinkla vegakerfisins
EURORAP VERKEFNIÐ HEFUR LYFT GRETTISTAKI Í UMFERÐARÖRYGGISMÁLUM
F
élag Íslenskra Bifreiðaeigenda (FÍB) sér um framkvæmd EuroRAP á Íslandi. EuroRAP eru samtök 29 bifreiðaeigendafélaga í jafnmörgum löndum Evrópu, stofnuð árið 1999 að frumkvæði FIA, alþjóðasamtaka bifreiðaeigendafélaga. Hlutverk EuroRAP er að framkvæma gæðamat á vegum út frá slysasögu og mati á öryggi veganna samkvæmt samhæfðum aðferðum. EuroRAP er systurverkefni EuroNCAP, sem árekstrar prófar bíla og gefur stjörnur miðað við öryggi. Meginmarkmið beggja verkefnanna er að fækka verulega banaslysum og alvarlegum slysum í umferðinni. EuroRAP verkefnið felst í því að vegir eru skoðaðir með tilliti til öryggisþátta í umhverfi þeirra. Sérbúnum skoðunarbíl er ekið um vegina og tæknibúnaður í honum, ásamt sjónrænni skoðun, safnar gögnum um vegina og umhverfi þeirra með tilliti til slysahættu fyrir vegfarendur. Úr þessum gögnum er síðan unnið sérstakt áhættumat og áhættukort fyrir heildarvegi og vegarkafla. 34
Áhættumatið verður síðan leiðbeinandi fyrir ökumenn, fyrir veghaldara og vegagerðarfólk um hvað skal gera til að draga úr slysahættu á vegunum og hvernig nýir vegir verði best úr garði gerðir til að slysahætta verði sem minnst. Upplýsingarnar eru einnig mjög mikils virði fyrir stjórnmálamenn og þá sem taka ákvarðanir um framkvæmdir við vegagerð. Gefnar eru stjörnur fyrir hvern vegarkafla frá einni stjörnu til fimm. Markmiðið er að fá sem flestar stjörnur. EuroRAP verkefnið skiptist í tvo megin kafla. Áhættukort (RRM) og öryggisskoðun vega (RPS). RRM er skammstöfun fyrir “Risk Rate Mapping” og RPS er skammstöfun á “Road Protection Score”. Áhættukortin eru gerð þannig, að öll alvarleg umferðarslys yfir 5 ára tímabil eru greind niður á veghluta vegakerfisins og lengd vegkafla og umferðarmagn (ÁDU) vegið með. Úr þessu er síðan unnið kort sem sýnir þá vegakafla sem hafa versta slysatíðni með tilliti til umferðarmagns. Ólafur Kr. Guðmundsson, stjórnar-
maður Í FÍB, hefur verið tæknistjóri EuroRAP á Íslandi frá 2005. Hann hefur setið í ýmsum nefndum. Hann var m.a. um þriggja ára skeið dómari í Formúlu 1. Ólafur er mikill áhugamaður um allt sem viðkemur bílum og umferð. Aðspurður hver tilgangur og upphaf þátttöku í EuroRAP hefði verið segir hann að þetta hafi hafist 2004 en verkefninu hefði hann kynnst á ráðstefnu í London. „Verkefnið snérist um að gera öryggisúttekt á vegum á sama hátt og öryggisúttekt á bílum þar sem við stjörnumerkjum vegina sjálfa og bílana. Markmiðið sé alltaf fimm stjörnu bílar á fimm stjörnum vegum. Þannig að það var búið til kerfi sem heitir EuroRAP þar sem lagt er öryggismat með því að keyra vegina. Notað er ákveðið hugbúnaðarkerfi, til að merkja við hvaða hættur og líka góðir hlutir leynast í hverjum vegi fyrir sig. Þetta er síðan reiknað í stjörnugjöf á vegina alveg eins og árekstrarprófanir eru notaðar sem stjörnugjöf á bílana.“ -Að baki þessu hlýtur að vera mikil
vinna en hvað hafa þessar úttektir leitt í ljós? ,,Við erum búin að gera þetta í raun þrisvar sinnum. Í fyrstu skýrslunni sem við birtum fjölluðum við um hvernig umhverfi veganna lítur út þegar bifreið fer út af vegi. Í nýrri skýrslu sem við munum birta innan tíðar tökum við alla vegina ásamt því að skoða umhverfið. Við gerum þetta mun nákvæmara núna þar sem við brjótum niður hvers eðlis hættan sé. Einnig tökum við út hvað er í veginum sjálfum sem getur orsakað slys eins og slæmar merkingar, skortur á öxlum og slit í vegi. Við gáfum út skýrslu fyrir þessa fyrstu yfirferð 2010 og erum núna á klára þriðju umferðina. Við slepptum í rauninni að birta skýrsluna eftir aðra umferðina vegna þess að þróunin var svo hröð að hún fór eiginlega fram úr okkur. Við fórum því strax út í þriðju útgáfu sem við erum að ljúka núna sem sýnir okkur það að vegakerfið er ekki í eins góðri stöðu og við áttum von á. Við erum að standa okkur mun lakar en flestar þjóðir sem við berum okkur saman við hvað varðar öryggi vegakerfisins,“ segir Ólafur. Alvarlegustu slysin verða út af skorti á búnaði Ólafur segir að það sem blasi við séu lélegar merkingar. Þær séu vitlausar eða engar yfirborðsmerkingar sem afmarka t.d. kanta á vegum. Við erum með slæma hluti í köntum á vegum, hátt fall fram af, það er grjót og manngerðir hlutir eins og ljósastaurar, Vegrið vantar, mjóir vegir og nú síðustu árin, mikið slit. Þetta er það sem einna helst blasir við og við þurfum að gera stórt átak í að laga. Mörg af alvarlegustu umferðaslysunum verða út af skorti á búnaði. -Íslenska vegakerfið í samanburði við það erlenda. Hvar stöndum við í þeim efnum? ,,Í samanburði við aðrar þjóðir erum við að koma verr út en Egyptaland, Indland og fleiri þjóðir gæti ég nefnt. Flestar þjóðir miða við það að helstu vegir hjá þeim eigi að vera með þrjár stjörnur eða meira af fimm mögulegum. Yfir 70% í okkar vegakerfi eru vegir með 1-2 stjörnur. Við erum ekki með nema um það bil 20-30 km af fimm stjörnu vegum eins og staðan
er í dag. Eins og sést eigum við langt í land og við þurfum að setja okkur markmið sem snýr að því og gera eins og aðrar þjóðir gera og koma vegakerfi okkar uppi í þrjár stjörnur eða meira. Það tekur tíma og til þess þarf að beina fjármagninu rétt og finna hvar veikleikarnir eru. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera með þessari úttekt,“ segir Ólafur. Úttektir unnar í samvinnu með Amazon og Google Þegar Ólafur er inntur eftir hvort stjórnvöld nýti sér þessar upplýsingar segir Ólafur þau farin að gera það. Núna sé nýjasta úttektin á þeim tímamótum að hún verður aðgengileg öllum. Úttektin er að fara inn á nýtt tölvuumhverfi sem er á Amazonskýinu og unnið í samvinnu með Amazon og Google. Þarna verða bæði kort og allskonar tölulegar upplýsingar, töflur og úrbætur, sem hægt verður að lesa út úr þessu kerfi. Núna fyrri hluta vetrar verða þessar niðurstöður birtar sem allir geta nýtt sér. Þetta hefur nú þegar verið notað, bæði á fundum með Vegagerðinni, sveitastjórnum og fleirum. Það hefur nú skilað þeim árangri að Vegagerðin er farin að mála línur mun meira en gert hefur verið síðustu tvö ár. Núna er Vegagerðin með átak í gangi að mála heilar kantlínur af öllu sem hún gerir á þessu ári. Í því sambandi einbeitti Vegagerðin sér að leiðum sem ferðamenn fara mikið um sem nú þegar er farið að skila árangri. Ljósastaurar, sem settir eru upp í dag, eru ekki þeir sömu og settir voru upp hér áður. Þetta er bein afleiðing úttektar okkar en við sáum að staurarnir voru rangir. Þá er búið að lengja vegrið og setja betri vegriðsenda. Öll vegrið sem sett hafa verið upp sl. fjögur ár á Íslandi eru af réttri gerð og rétt sett upp. Sama á við um brúarhandrið og axlir á vegum og breiðar akreinar. Möguleikarnir sem þetta býður upp á þegar við setja þetta endanlega í loftið eru miklu meiri en áður. EuroRap verkefnið heldur áfram á heimsvísu Ólafur segir að EuroRAP-verkefnið haldi áfram og núna er verið að vinna þetta á heimsvísu. Þetta er ekki bara EuroRap heldur einnig á USARAP í
Bandaríkjunum, AUSRAP í Ástralíu og ChinaRAP í Kína. Þetta er partur af átaki hjá Sameinuðu þjóðunum með það að markmiði að auka umferðaröryggi til ársins 2020 og þaðan í frá. Þetta er komið inn í alla starfsemi Alþjóða- og þróunarbankanna sem styrkja vegagerð út um allan heim. Þetta er því orðið alheims verkefni en um 20 lönd eru núna að gera það sama og við á Íslandi að setja þessar upplýsingar inn í nýja tölvukerfið sem verður aðgengilegt öllum. Þetta verður sambærilegt á milli landa svo hægt sé að fá sama mat frá einu landi til annars. Það er einnig verið að vinna í því að upplýsingar úr þessu kerfi fari síðan inn í leiðsögukerfi bílanna. Þannig að þegar keyrt er um einhvern tiltekinn veg fáist upplýsingar hverjar hætturnar eru í veginum. Ólafur segist alveg sjá fyrir sér hluti eins og einbreiðar brýr og hættulega staði í vegakerfi Íslands sem ætti að geta komist sjálfkrafa inn í leiðsögukerfi bílanna þegar þeir eru að nálgast viðkomandi stað. Ólafur segir alla alla tækni til staðar til að gera þetta en núna sé bara verið að koma upplýsingunum inn þannig að þær verða aðgengilegar fyrir leiðsögukerfið. Ólafur sagðist sjá fyrir sér í framtíðinni að þetta verði gagnvirkt þannig að hægt verður að fá upplýsingarnar á þeim stað sem þú ert á hverjum tíma. Hverjar eru hætturnar í þessum ákveðna vegi og hvað er það sem ber að varast. Ólafur minntist á sjálfkeyrandi bíla og sagði þetta einn af grunnþáttunum sem þarf til að sjálfkeyrandi bílar geta farið að virka á öruggan hátt. -Vinna FÍB við þetta verk-efni er þá nú þegar farin að skila sér. Stjórnvöld muni nýta sér niðurstöðurnar sem nú liggja nú þegar fyrir? ,,Alveg klárlega. Eins og ég hefur áður lýst er þetta nú þegar farið að skila sér. Menn eru farnir að framkvæma hlutina öðruvísi en þeir gerðu áður. Eitt sem gerist líka í kjölfarið er að kynna niðurstöðurnar fyrir stjórnmálamönnum og fagfólki s.s vega-gerðarfólki, lögreglu og öðrum sem láta sig umferðaröryggi varða. Það er brýnt að þessi aðilar átti sig á hver staðan er og í hvaða úrbætur þurfi að ráðast í. Næsta skref er að við þurfum að gera þetta aftur og fylgjast 35
UMFERÐARÖRYGGI BÍLAPRÓFUN FÍB með því sem lagfært er í vegakerfinu. Sem dæmi er hægt að nefna að þegar við tókum fyrst út Hellisheiði árið 2012 var ekki kominn vír fyrir miðju vegarins, ekki búið að laga Kambana né heldur gatnamótin við Hellisheiðarvirkjun. Nú er hins vegar búið að ráðast í úrbætur, úttekt var gerð í sumar og nú erum við komin með samanburð. Nú geta menn farið að setja sér markmið varðandi það hvað þurfi að uppfæra í vegakerfinu og mælt áhrifin af breytingum frá einum tíma til annars. Þetta hjálpar mönnum líka við fjárfestingar vegna þess að í kerfinu er módel sem reiknar út hvaða aðgerð myndi skila mestum árangri í fækkun slysa,“ segir Ólafur. Hætta lagningu vega sem standast ekki kröfur Ólafur bendir einnig á að margir af nýjustu vegunum okkar eins og Suðurstrandarvegur fær mjög slaka einkunn vegna þess að það er úfið hraun svo nálægt veginum en ekki var gengið frá örygginu strax. Hann segir frá öðrum vegum sem byggðir voru rétt fyrir hrun sem eru aftur á móti að fá 3-4 stjörnur eins og nýja Lyngdalsheiðin og vegurinn að Landeyjahöfn. Þetta hafi verið vegir sem voru byggðir samkvæmt kröfum sem gerðar eru til 36
vega í dag, með öxlum og þokkalegum yfirborðsmerkingum. Þar eru líka réttu vegriðin, góðir kantar, full breidd og fullur burður. Þetta séu 4 stjörnu vegir sem segi okkur að við getum byggt góða vegi. Við þurfum bara að fara að hætta að leggja 1-2 stjörnu vegi, uppfæra þá frekar upp í 3-4 stjörnur. Þetta sé langtímaverkefni, það þarf að byrja og hætta að leggja vegi sem ekki standast kröfurnar. -Þegar ráðist verður í framkvæmdir kemur það ekki til með að kosta mikla fjármuni? ,,Jú, en það gera slysin líka, þau kosta okkur enn meira fyrir utan allar mannlegar hörmungar sem í kringum þau verða. Það að laga vegi fækkar slysum, minnkar álag á heilbrigðiskerfið, gefur fólki betra líf og sam göngur ættu að verða betri og örugg-ari. Það er verk að vinna hvað þetta varðar og auðvitað kostar þetta peninga. Þetta er langtímaverkefni en ég get nefnt aðrar þjóðir sem búnar eru að setja sér markmið í þessum efnum. Svíar og Hollendingar eru að bygg-ja og uppfæra vegi núna sem verða allir 3-4 stjörnu. Bretar fóru í þetta manna fyrstir og þeim hefur tekist að útrýma öllum einnar stjörnu vegum úr kerfinu hjá sér. 1-2ja stjörnu vegir eru að hverfa úr öllu breska vega
kerfinu, þeir eru víðast hvar komnir með 3-4 stjörnu vegi og bestu vegir þeirra eru orðnir fimm stjörnu. Núna erum við komin með tæki til að segja okkur hvar við eigum að drepa niður fæti. Markmiðið er fimm stjörnu bílar á fimm stjörnu vegum með fimm stjörnu hegðun en þá erum við komin með öruggt umferðarkerfi. Þetta er sama hugsun og er í fluginu og á sjónum í dag. Við þurfum núna að snúa okkur að umferðinni hvað þetta varðar,“ segir Ólafur. Þegar Ólafur er inntur eftir því hvað hafi komið honum einna mesta óvart í verkefninu segir hann fyrst koma upp í hugann sinnuleysið og hvað menn voru orðnir samdauna. Hann sé alls ekki að gagnrýna Vegagerðina frekar en annan, miklu heldur okkur öll. Að við séum að sætta okkur við að tapa 200 manns á ári, alvarlega slösuðum og látnum í umferðinni, er engan veginn ásættanlegt. Fjármunum til eflingar öryggis er vel farið ,,Í fyrra létust eða slösuðust alvarlega í umferðinni alls 233 einstaklingar og það er aukning miðað við árið á undan. Þessi staðreynd virðist ekki ýta við okkur og það slær mig einna mest. Það er ekki fyrr en það snertir
ein-hvern persónulega sem menn stökkva upp og finnst þetta agalegt. Sem dæmi tóku snjóflóðin sem dundu yfir okkur fyrir nokkrum árum mörg mannslíf. Við fórum í málið og eyddum milljörðum í snjóflóðavarnir. Það er óásættanlegt að látist eða slasist yfir 200 manns á ári í umferðinni. Það gengur ekki lengur,“ segir Ólafur. Fjármunir ætlaðir í vegagerð skilar sér ekki alla leið ,,Það er há prósenta hér á landi sem þarf að leggjast inn á Grensásdeildina í endurhæfingu í kjölfar umferðaslysa. Ef við gætum gert vegina öruggari þá minnkum við þetta álag á heilbrigðiskerfið. Eins og ég hef áður sagt þá erum við með yfir 200 manns ári sem eru að lenda í þessu. Mismikið í mislangan tíma, sumir ævilangt og sumir láta lífið. Þetta er mikið tjón fyrir samfélagið sem við eigum ekki að sætta okkur við. Hvað varðar fjármagn í þetta þá eru bílar og umferð skattlögð heilan helling en lítið brot af því skilar sér í vegagerð. Við verðum bæta úr og gera allt sem í okkar valdi stendur til að snúa þessari þróun við,“ segir Ólafur. Ólafur undirstrikar að fjármunir sem ætlaðir eru til uppbygginga vega og annarra öryggismála tengdum samgöngum eru bara alls ekki að fara í málaflokkinn. Ólafur segir að 30 milljarðar sem áttu að vera til ráðstöfunar í ár og á næsta ári séu að megninu til að fara í aðrar aðgerðir. Ég get nefnt jarðgöng á Bakka sem engin fær að nota nema þeir sem þar eru á svæðinu. Fleiri dæmi væri hægt að nefna út um allt land eins og Vaðlaheiðagöng (sjá grein á bls. 39 . Við þurfum heldur að gera miklu meira af því að setja fjármagn í það sem skilar sér beint í bættu umferðaröryggi. -Hefur verkefni EuroRAP, að auka
öryggi vega, skilað sér og vakið ráðamenn til umhugsunar? ,,Það segir svolítið til um hversu lítil áhersla var lögð á að búa til örugga vegi að samgönguráðherrar heimsins hittust í fyrsta skipti til að ræða umferðaöryggismál árið 2009. Ef við værum að finna bílinn og vegina upp í dag þá myndum við aldrei gera þetta svona eins og við höfum gert. Við erum núna með kerfi sem er ekki nógu öruggt. Menn hafa oft byggt á vanefnum og ekki haft öryggið í fyrirrúmi þegar vegur er lagður. Við erum að sjá vegi eins og í Ísafjarðardjúpinu þar sem er þverhnípi fram að veginum en ef bifreiðin fer út af þá hrapar hún niður í sjó. Eins eru víða skurðir meðfram vegum en það er vitað mál að það er slæmt að aka á bíl á mikilli ferð ofan í skurð eða lenda á grjóti. Við eigum að gera ráð fyrir því eins og gert er í EuroRAP að horfa á vegina út frá því að það mun einhver
fara út af hér þó það hafi ekki gerst hingað til. Við spáum fyrir um með þessari úttekt hverjar afleiðingarnar verði ef bíll fer út af. Það er svo borið saman við þá staði þar sem slíkt hefur gerst. Ég er bjartsýnn á að það takist að efla enn öryggið en þetta kostar mikla vinnu. Allir aðilar þurfa að tala saman og samfélagið þarf að hætta að sætta sig við þetta. Það er brýnt að Vegagerðin fái það fjármagn sem þarf til að laga hlutina og koma þeim til betri vegar. Þetta snýst um að bæði fjárveitingavaldið og borgararnir hætti að sætta sig við þetta. Við þurfum að beita þrýstingi til að koma þessum málum til betri vegar.“ segir Ólafur. Ólafur er fullviss um að EuroRAP verkefnið hafi lyft grettistaki í umferðaröryggismálum og opnað augu margra. Hann segist nú þegar finna mikla breytingu meðal annars hjá sveitarfélögunum í þeim efnum.
Landsþing FÍB 18. nóvember 2017
F
élag íslenskra bifreiðaeigenda boðar til landsþings laugardaginn 18. nóvember kl. 9.30. Þingið verður haldið í fundarsal við Skúlagötu 19, 101 Reykjavík, aðsetur félagsins er í sama húsi. Landsþing hefur æðsta vald í málefnum FÍB. Rétt til setu á landsþingi sem fulltrúi með atkvæðisrétt eiga allir fullgildir félagar í FÍB sem eru skuldlausir við félagssjóð og hafa verið félagsmenn í a.m.k. 6 mánuði fyrir boðað landsþing. Félagsmenn skulu tilkynna landsþingsþátttöku með a.m.k. 10 daga fyrirvara. Félagsmenn eru hvattir til að tilkynna landsþingsþátttöku sem fyrst eða í síðasta lagi 8. nóvember 2017 í síma 414 9999 eða með tölvupósti á netfangið fib@fib.is. Á landsþingi verður farið yfir starf félagsins og reikninga félagssjóðs. Á þinginu verður einnig fjallað um neytendamál og umferðaröryggi með sérstaka áherslu á öruggari vegi og umhverfi vega. Áhugasamir geta nálgast lög félagsins hér: https://www.fib. is/is/um-fib/log-felagsins 37
FÍB VERÐKANNANIR
BÍLAPRÓFUN FÍB VERÐKANNANIR
I
nnkoma Costco á íslenska markaðinn hefur haft mikil áhrif á vöruverð. FÍB hefur áður borið saman verð á nokkrum bílavörum, frá sama framleiðanda, annars vegar hjá Costco og hins vegar hjá öðrum rótgrónum íslenskum verslunarfyrirtækjum. Hér undir er samanburður á verði einnar vöru sem margir þekkja eða WD-40 í 450 ml spreybrúsa með strái. Til að njóta þessara kjara hjá Costco kostar ársaðild fyrir einstaklinga 4.800 krónur en fyrirtækjaaðild kostar 3.800 fyrir árið. Það er athyglisvert að sjá hversu mikill verðmunurinn er. FÍB var með samskonar úttekt um leið og Costco opnaði í maí. Verðið á 5 lítra brúsa af Mobil 1 0W40 new life hefur lækkað í verði hjá Costco frá opnun. Fimm lítra brúsi kostaði í maí 4.699 krónur en kostar nú 4.329 krónur. Hjá N1 er verðið það sama fyrir Mobil 1 olíuna og það var í maí en þar er olían seld á 4 lítra brúsum. Fjórir lítrar hjá N1 eru 141% dýrari en fimm lítrar hjá Costco. Miðað við sama magn er verðmunurinn 201%. Costco selur WD-40 í pakkningu sem inniheldur þrjá 450 ml spreybrúsa á 1.679,- krónur. Það gerir 560 krónur á hvern brúsa. Einn WD-40, 450 ml, spreybrúsi kostar 1.490.- krónur hjá Heimkaupum, 1.679,- hjá Húsasmiðjunni, 1.795.- hjá N1 og loks 2.069,- krónur hjá Olís. Ljóst er að hér er um að ræða gífurlegan verðmun. Verðmunurinn á Rain-X í Costco samanborið við AB varahluti 155,9%. Hjá Bílanausti kostar einn 500 ml. Rain-X brúsi 995 krónur en kostaði 1.989 krónur í maí. Bílanaust hefur lækkað verðið á 500 ml. Rain-X rúðuhreinsi um 50% eftir að Costco hóf rekstur. Miðað við sama magn er verðmunurinn ríflega 42% en það þarf ekki að kaupa tvo brúsa saman hjá Bílanausti eins og hjá Costco.
38
VAÐLAHEIÐARGÖNGUM VAR LOGIÐ INN Á LANDSMENN
Þ
egar Vaðlaheiðargöng verða tekin í notkun á næsta ári væri við hæfi að setja þar upp stórar myndir af þeim Kristjáni Möller og Steingrími J. Sigfússyni. Þeir og aðrir þingmenn kjördæmisins ásamt ýmsum minni spámönnum úr sveitarstjórnum á Norðausturlandi, eiga skuldlaust heiðurinn af því að hafa troðið göngunum í gegnum Alþingi með frekju og yfirgangi. Árum saman fullyrtu þessir aðilar að skattgreiðendur myndu engan kostnað hafa af Vaðlaheiðargöngum, því gangagjöld myndu standa undir honum að fullu. Með þennan þvætting að vopni tókst þeim að koma Vaðleiðargöngum framfyrir röð brýnna samgönguverkefna á þeim forsendum að ríkissjóður þyrfti engan kostnað af þeim að bera. Gangagjöld standa undir broti af kostnaðinum Nú hefur endanlega verið staðfest að gangagjöld munu ekki standa undir nema broti af kostnaðinum við gerð Vaðlaheiðarganga. Þetta lá reyndar strax fyrir árið 2011, þegar FÍB sýndi með útreikningum að miðað við þáverandi kostnaðaráætlanir gengi dæmið ekki upp og reikningurinn yrði sendur til skattgreiðenda. Allt stefnir í að Vaðlaheiðargöng fari 30% framúr áætlun og muni á endanum kosta um eða yfir 20 milljarða króna með fjármagnsgjöldum. Í skýrslu Friðriks Friðrikssonar rekstrarhagfræðings um Vaðlaheiðargöng, sem hann vann fyrir fjármálaráðuneytið, kemur fram að meðal gangagjaldið þurfi að vera tvöfalt hærra í Vaðlaheiðargöngum en í Hvalfjarðargöngum til að raunhæft sé að lán vegna
framkvæmdanna borgi sig upp á 40 árum. Fram kemur hjá Friðrik að gjaldið þurfi að meðaltali að vera 1.220 krónur án virðisaukaskatts og 85% af umferðinni fara um göngin fremur en Víkurskarð ef ríkissjóður á að sleppa með skrekkinn. Þar sem þetta er meðalverð, þá þyrfti fullt verð án afslátta að vera um eða yfir 2.500 krónur með vsk. Dæmi sem gengur ekki upp Þeir Steingrímur J., Kristján Möller og sveitarstjórnarmennirnir geta sjálfsagt talið sér blinda trú um að ferðafólk kjósi að spara sér tvo bensínlítra og 9 mínútna akstur með því að reiða fram 2.500 kr. fyrir að fara göngin fremur en um Víkurskarð á björtum sumardegi. Friðrik Friðriksson rifjar upp í skýrslu sinni að í frumathugun Vegagerðarinnar árið 2002 á göngum undir Vaðlaheiði sé rætt um að gangagjaldið megi ekki vera hærra en kostnaður við að aka vegalengdina sem styttist, þ.e. 16 kílómetra. Þá taldi Vegagerðin heldur ekki líklegt að vegfarendur sættu sig við hærri gjöld undir Vaðlaheiði en undir Hvalfjörðinn. Þar eru meðalgjöldin nú um 600 kr. og fullt gjald fyrir fólksbíla 1.000 kr. Samkvæmt útreikningum Friðriks þarf ekki mikil frávik frá þessum útreikningum hans til að afborganir lánsins verði í bullandi mínus. Á mannamáli þýðir það að skattgreiðendur sitja uppi með reikninginn. Vanáætlanir og sjálfsblekkingar Allar þessar upplýsingar lágu fyrir löngu áður en kjördæmapotarar allra flokka náðu sínu fram með blekkingum í gegnum Alþingi. Miðað við
útreikninga Friðriks Friðrikssonar, svo og útreikninga sem bæði FÍB og Pálmi Kristinsson verkfræðingur hafa birt, þá er ekki fræðilegur möguleiki að gangagjöld standi undir nema í mesta lagi helmingnum af ríkisláninu sem meirihlutaeiganda Vaðlaheiðarganga hf, Greiðri leið ehf, tókst að komast yfir. Ennfremur er ljóst að rekstrarkostnaður ganganna hefur alla tíð verið stórlega vanáætlaður og sá kostnaður dregur enn frekar úr endurgreiðslum lánsins frá ríkissjóði. Umferð verður án vafa mikil um göngin að vetrarlagi, en sú traffík er aðeins um 20% af umferðinni að sumarlagi. Setja má stórt spurningamerki við þá fullyrðingu að með göngunum verði Akureyri og Húsavík að einu atvinnusvæði. Eftir sem áður verða 75 km á milli bæjanna. Það er svipað og milli Reykjavíkur og Borgarness, sem seint verða talin á einu og sama atvinnusvæðinu. Enginn sér ofsjónum yfir því öryggi sem Vaðlaheiðargöng skapa að vetrarlagi. Í raun er enginn á móti Vaðlaheiðargöngum, síst af öllu FÍB. Göngin voru hins vegar mjög aftarlega í samgönguáætlun og væru enn langt frá því að verða að veruleika ef allt væri með felldu. Pólitískir frekjuhundar komu þeim framfyrir röðina með því að telja nógu mörgum öðrum þingmönnum trú um að ríkissjóður þyrfti aðeins að lána fé til framkvæmdarinnar, tekjur myndu standa að fullu undir endurgreiðslu lánsins.
39
BÍLAPRÓFUN FÍB ÖRYGGI BARNANNA
93% GENGU YFIR GERVIGANGBRAUT VIÐ AUSTUBÆJARSKÓLA
Í
frétt frá Reykjavíkurborg segir Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar að „Gönguleiðir skólabarna, frá heimili í skóla, í flestum skólum borgarinnar voru kortlagðar með ítarlegum hætti fyrir nokkrum árum. Börnin teiknuðu sjálf inn á kort þær leiðir sem þau ganga og hvar þau þvera götur og voru niðurstöðurnar voru settar inn í gagnagrunn.“ Að gefnu tilefni gerði FÍB könnun á gönguleiðum við Austurbæjarskóla fimmtudagsmorguninn 7. september milli kl. 8.00 - 8.20. Þveranir gangandi vegfarenda voru taldar á gatnamótum Bergþórugötu/ Barónsstígs og hinsvegar Bergþórugötu/Vitastígs. Ökutæki voru einnig talin sem fóru um bæði gatnamótin. 30 km hámarshraði er á báðum þessum gatnamótum. Það sem vakti athygli okkar er að 93% gangandi vegfarenda gengu yfir gervigangbrautir (engar zebramerkingar né gangbrautarskilti) við þessi tvenn gatnamót við Austurbæjarskóla þennan umrædda morgun. Aðeins 27 af 174 sem fóru um gatnamót Bergþórugötu/Barónsstígs fóru yfir gangbrautina sem borgin valdi að hafa zebra og gangbrautarskilti. Merkingar gangbrauta hjá borginni 40
sem taka mið af umferðaröryggi náði einungis til 7% gangandi vegfarenda við Austurbæjarskóla í morgun. Allir þurfa að vita sína stöðu í umferðinni, gangandi jafnt sem akandi, svo fyllsta öryggis sé gætt. Að sjá gangandi vegfarenda á ekki að vera það eina sem gefur ökumanni til kynna að mögulega sé þverun gangandi fyrir framan hann. Því er nauðsynlegt að setja upp zebramerkingar og gangbrautarskilti. Þessi könnun sýnir að ítarleg kortlagning Reykjavíkurborgar fyrir nokkrum árum á gönguleiðum skólabarna við Austurbæjarskóla eiga engan veginn við í dag. Upphækkanir í kringum barnaskóla eru góðar og gildar og draga úr hraða þar sem börn eru á ferð en hægt er að gera miklu betur í zebramerkingum og gangbrautarskiltum til að bæta samskiptin milli ökumanna og gangandi. Að auki vantar lýsingu víða við gangbrautir. Gönguþveranir Leiðbeiningar frá Vegagerðinni Innan 30 km/klst. svæða er rétt að merkja gangbraut þar sem umferð akandi, gangandi eða beggja er mikil og þar sem hátt hlutfall gangandi vegfarenda eru börn, eldri eða fatlaðir. Svo sem við helstu gönguleiðir skólabarna og við íbúðir aldraðra
Gangbrautarskilti D02.11 skal vera báðum megin gangbrautar og skiltið þannig að það sé með mynd á Gangbraut skal merkt með hvítum samhliða röndum langsum á götu. Lengd randanna (breidd gangbrautar) er samræmi við fjölda gangandi, þó að lágmarki 2,5 m. Yfirborðsmerkingar eiga að vera skýrar, málaðar, massaðar eða lagðar með steinum/hellum. Hér eru könnunin í tölum: Gatnamót Bergþórugötu/Barónstígs milli kl. 8 - 8.20 178 ökutæki fóru um gatnamótin. 174 sinnum var gengið yfir þverun á gatnamótunum. ( 4 þveranir. ) 147 sinnum var þveruð gatan þar sem engin gangbraut er né gangbrautarskilti. ( 3 þveranir ) 27 sinnum var þveruð gata með gangbraut og gangbrautarskilti. ( 1 þverun ) Gatnamót Bergþórugötu/Vitastígs milli kl. 8 - 8.20 144 ökutæki fóru um gatnamótin. 219 sinnum var gatan þveruð þar sem engin gangbraut er né gangbrautarskilti. ( 3 þveranir ) Engin gangbraut né gangbrautarskilti er við gatnamótin.
SETBERGSSKÓLI HLÝTUR GANGBRAUTINA 2017
F
élag íslenskra bifreiðareigenda, FÍB, afhenti Setbergsskóla viðurkenninguna Gangbrautin 2017 sem veitt er fyrir vel skilgreindar og vel merktar gangbraut-ir við skólann. Hrafna Hjartar Geirfinnsdóttir og Birnir Hólm Bjarnason nemendur við skólann og María Pálmadóttir, skólastjóri, tóku á móti viðurkenningunni úr hendi Runólfs Ólafssonar framkvæmdastjóra FÍB. Viðstaddir við athöfnina voru nemendur í 1. og 2. bekk skólans ásamt kennurum og starfsliði. ,,Við erum stolt að viðurkenningunni og hún vekur athygli á því sem vel er gert í hverfinu. Þetta er ennfremur hvetjandi fyrir okkur öll og bæjaryfirvöld til þess að vera á tánum
gagnvart þessum öryggismálum í nágrenni skóla. Viðurkenningin undirstrikar að vel hefur verið unnið í þessum málum í hverfinu og vekur líka um leið athygli á umferferðaröryggi barna. Viðurkenningin hefur tvímælalaust ákveðið forvarnargildi,“ sagði María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla, eftir móttöku viðurkenningarinnar. Viðurkenningin er liður í gangbrautaverkefni FÍB og mun halda áfram næstu árin. Það miðar að því að kanna hversu góðar og öruggar gönguleiðir skólabarna eru og hvar er þörf á úrbótum. FÍB hyggst kanna ástand þessara mála árlega og þrýsta á um úrbætur þar sem þeirra er þörf en veita jafnframt viðurkenningu fyrir það sem vel er gert.
F.v Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB, Hrafna Hjartar Geirfinnsdóttir, Birnir Hólm Bjarnason og María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla.
Í upphafi yfirstandandi skólaárs kannaði FÍB ástand gangbrautarmerkinga við skóla á höfuðborgarsvæðinu. Þá kom í ljós að á nokkrum stöðum eru þessi mál í ólestri. Víða aftur á móti má sjá vel merktar gangbrautir sem ber að fagna.
GENGUR BARNIÐ ÞITT YFIR GERVIGANGBRAUT
Á
haustin þegar skólar hafa aftur tekið til starfa erum við hjá FÍB að rýna í gönguleiðir barna í skólann og öðrum öryggisþáttum sem að þeim lúta. Við höfum tekið gangbrautir fyrir í gegnum árin, athugað öryggisgildi þeirra og eins hvort merkingar séu til staðar. Sveitafélög eru mjög misjöfn í þessum efnum, meðan Hafnarfjörður og Kópavogur standa sig þokkalega í
þessum efnum, er merkingum í Reykjavík sumstaðar ábótavant. Mjög verulegt misræmi er milli sveitarfélaga hvað varðar frágang á gangbrautum. Verulega skortir á samræmi og samræmdar reglur og skilgreiningar um það hvað teljist fullgild gangbraut og hvernig beri að merkja hana. Oft eru skólar með 1-2 gangbrautir í lagi næst inngangi skóla og láta það duga. Oftast eru fleiri gönguleiðir
við skóla innan við 100 metra sem skólastjórnendur / sveitafélög taka blinda augað á. 41
BÍLAPRÓFUN FÍB TÆKNIMÁL
KANNIÐ OLÍUSTÖÐUNA Á 1.000 KM FRESTI
Þ
að þarf rétt eldsneyti, rétta smurolíu og viðeigandi viðhald til að tryggja eðlilega endingu og mjúkan gang bensín- og dísilvéla. Sérfræðingar frá þýska skoðunarfyrirtækinu DEKRA, sem er öflugasta bílaskoðunarfyrirtæki Evrópu, segja að gott eftirlit og viðhald dragi verulega tíðni alvarlegra vélarbilana. Olíuþrýstingsljósið í mælaborði bíla er stílfærð mynd af olíukönnu. Viðvörunarljósið er ábending um olíuþrýsting en ekki olíustöðu. Ef olíuþrýstingsljósið tendrast í akstri þá er aðeins eitt til ráða að drepa strax á bílnum (á öruggum stað) og hafa samband við verkstæði. Sama á við ef olíuþrýstingsljósið helst logandi í nokkarar sekúndur eftir ræsingu. Of lágur olíuþrýstingur getur leitt til alvarlegs tjóns á vélum. Rétt olía á réttum tíma Ef olíuskipti eru hunsuð eða smurolían notuð of lengi getur olían á vélinni orðið hættulega seig og sótug. Smureiginleikar 42
olíunnar minnka sem veldur skemmdum á vél eða vélarhlutum og túrbínum. Ef notuð er röng olía eða olía með ranga seigju, er líklegt að það geti skaðað vél. Ef sett er of mikil olía á vélina þá getur það skemmt hvarfakútinn. Þegar skipt er um olíu verður nýja olían að uppfylla þær kröfur og staðla sem framleiðandi bílsins tilgreinir í eigendahandbókinni. Skipta á um smurolíu á flestum nýjum bílvélum á 15.000 til 30.000 km fresti (að teknu tilliti til akstursnotkunar). Sama á við um svokallaðar “long-life” smurolíur sem eru framleiddar með lengri endingu í huga eða allt að 30.000 km akstur. Sótmyndun er mest í bílum sem ekið er stuttar vegalengdir og vélarnar ná því sjaldan upp fullum og eðlilegum vinnsluhita. Í þannig notkun þarf einfaldlega að skipta oftar um olíu miðað við ekna kílómetra, heldur en í bílum sem notaðir eru til langkeyrslu. Olíusmit Oft má finna olíusmit og olíuleka á vélum bíla. Samkvæmt út-
tekt DEKRA þá fannst olíusmit eða olíuleki á 8 prósent þeirra bíla sem fyrirtækið skoðaði árið 2016. Í einu af hverjum sjö tilvikum (14% olíusmitaðra) var olíusmitið flokkað sem alvarleg skemmd. Ef bíleigandi verður var við olíuleka t.d. olíubletti á stæði undir bílnum þá verður að kanna málið nánar og leita álits fagaðila. Ábendingar frá DEKRA til að tryggja mjúkan gang vélar • Sinnið viðhaldi og umhirðu bílsins í samræmi við fyrirmæli framleiðanda • Kannið olíustöðuna á 1.000 km fresti og áður en haldið er af stað í langferð • Bætið réttri olíu á vélina strax ef olíustaða er lág • Fylgið leiðbeiningum framleiðanda um smurþjónustu og olíuskipti • Gætið að því að skipta um olíu á réttum tíma • Gætið þess að setja ekki of mikið af olíu á vélina - olían á ekki að fara yfir MAX á olíukvarðanum • Notið olíu sem uppfyllir staðla framleiðanda • Ef olíuleka verður vart á strax að leita álits fagaðila og gera við skemmdirnar • Ef olíuljósið tendrast á að stöðva strax og láta flytja bílinn á verkstæði Hversu oft athugar þú olíuna á bílnum þínum?
hvaða þrír bílar í hverjum flokki komust í úrslit. Síðan bættust fleiri bílablaðamenn við og óku Þá er komið aftur að þeim tíma ársins að val áúrslitabílunum bíl ársins á Íslandiaftur fer fram. og áður viðLíkt nýjar og stendur Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, fyrir valinu. Alls er 31 bíll tilnefndur frá níu krefjandi aðstæður. Í kjölfarið Þá er komið aftur að þeim tíma ársins að val á bíl ársins á Íslandi fer fram. Líkt og áður stendur bifreiðaumboðum og eru flokkarnir í árfyrir fjórir talsins: Smábílar, millistærð, fólksbílar og Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, valinu. Allssvo er 31 bíll tilnefndur frá hver níustærri var skorið úr um hlýtur bifreiðaumboðum og eru flokkarnir í ár fjórir talsins: Smábílar, millistærð,þeir stærri og jeppar/jepplingar. Forvalsnefndina skipa fimm bílablaðamenn; eru:fólksbílar Finnur Thorlacius hið eftirsóknarverða „Stálstýri” jeppar/jepplingar. Forvalsnefndina skipa fimm bílablaðamenn; þeir eru: Finnur Thorlacius Fréttablaðið/Vísir (og formaður BÍBB), Guðjón Guðmundsson - Viðskiptablaðið, Njáll og,Róbert að sjálfsögðu, titilinn „Bíll Fréttablaðið/Vísir formaður(og BÍBB), GuðjónBÍBB), Guðmundsson - Viðskiptablaðið, Njáll Gunnlaugsson(og - Bíllinn.is gjaldkeri Róbertsson - Viðskiptablaðið og ársins á Íslandi”. Gunnlaugsson Bíllinn.is (og gjaldkeri BÍBB), Róbert Róbertsson Viðskiptablaðið og loks Róbert Már Runólfsson frá FÍB blaðinu (og ritari BÍBB). loks Róbert Már Runólfsson frá FÍB blaðinu (og ritari BíllBÍBB). ársinstilnefndum hefur núbílum verið Líkt og undanfarin ár sér forvalsnefnd um að reynsluaka og kjörinn ákveða hvaða þrír Líkt og undanfarin ár sér forvalsnefnd um að reynsluaka tilnefndum bílum og ákveða hvaða þrír ritari BÍBB). flokki komast í úrslit. Munu þá fleiri og hver hann er bætast verðurvið tilkynnt bílar í hverjum bílablaðamenn og verður bílar í hverjum flokki komast í úrslit. Munu þá fleiri bílablaðamenn bætast við og verður Líkt og undanfarin sánýjar forvið athöfnf síðar ískorið úrslitabílunum við og krefjandi aðstæður. verður svo úrslitabílunum ekiðekið afturaftur viðár nýjar og krefjandi aðstæður. Í sérstaka kjölfariðÍ kjölfarið verður svo skorið úr um hver úr um hver hlýtur eftirsóknarverða „Stálstýri” að sjálfsögðu, titilinn „Bíll ársins á Íslandi”. valsnefnd um að reynsluaka mánuðinum. hlýtur hiðhið eftirsóknarverða „Stálstýri” og, aðog, sjálfsögðu, titilinn „Bíll ársins á Íslandi”. Búast að úrslitaakstur fari ífram í september og lokaathöfnin stuttu síðar þar sem Búast mámá viðvið að úrslitaakstur fram september og lokaathöfnin stuttu síðar þar sem tilnefndum bílum og fari ákveða
BÍLL ÁRSINS Á ÍSLANDI
Þ
á er komið aftur að þeim tíma ársins að val á bíl ársins á Íslandi fer fram. Líkt og áður stendur Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, fyrir valinu. Alls var 31 bíll tilnefndur frá níu bifreiðaumboðum og eru flokkarnir í ár fjórir talsins: Smábílar, millistærð, stærri fólksbílar og jeppar/jepplingar. Forvalsnefndina skipa fimm bílablaðamenn; þeir eru: Finnur Thorlacius - Fréttablaðið/Vísir (og formaður BÍBB), Guðjón Guðmundsson - Viðskiptablaðið, Njáll Gunnlaugsson - Bíllinn.is (og gjaldkeri BÍBB), Róbert Róbertsson - Viðskiptablaðið og loks Róbert Már Runólfsson frá FÍB blaðinu (og
sigurvegari verður tilkynntur. sigurvegari verður tilkynntur.
Flokkaskiptingin í ár íerárþessi: Flokkaskiptingin er þessi: Smábílar
Millistærð
Stærri fólksbílar
Jeppar/Jepplingar
Citroen C3
Fiat Tipo
BMW 5
Alfa Romeo Stelvio
Ford Fiesta
Honda Civic
Jaguar XF
Audi Q2
Ford Ka+
Hyundai i30
Opel Insignia Grand Sport
Audi Q5
Ford Ka+ Kia Picanto
Hyundai Opel Insignia GrandJaguar Sport F-Pace Audi Q5 Hyundai Ioniq i30 Peugeot 3008
Kia Kia RioPicanto
Hyundai Ioniq Peugeot 3008 Jaguar XE Renault Grand Scenic
Kia Rio Nissan Micra
Jaguar XE Volkswagen Renault Grand Scenic Jeep Compass Kia Niro Arteon Land Rover Discovery 5
Smábílar Citroen C3 Ford Fiesta
Suzuki Ignis Nissan Micra
Millistærð Fiat Tipo Honda Civic
Kia Niro
Suzuki Swift Suzuki Ignis
Stærri fólksbílar BMW 5 Jaguar XF
Jeppar/Jepplingar Alfa Romeo Stelvio Audi Q2
Jaguar F-Pace Jeep Compass
Volvo V90 CC Volkswagen Arteon Mazda CX-5 Land Rover Discovery 5
Volvo V90 CC
Suzuki Swift billarsins.is
Renault Koleos Mazda CX-5 Skoda Kodiaq
Renault Koleos
Volvo XC60
Skoda Kodiaq Volvo XC60
HLÖÐUM FYRIR RAFBÍLA FJÖLGAR billarsins.is
Orka náttúrunnar opnaði nýlega hlöðu með hraðhleðslu fyrir rafbíla við þjónustustöð N1 á Hvolsvelli. Næstu hlöður ON verða á þjónustustöðvum N1 í Vík og á Kirkjubæjarklaustri. Frá því ON tók forystu um uppbyggingu innviða fyrir rafbíla á árinu 2014 hefur fjöldi þeirra hér á landi fertugfaldast. Það var Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, sem tók hlöðuna formlega í notkun. ON hefur kappkostað að hlöðurnar séu sem aðgengilegastar fyrir fatlaða rafbílaeigendur. Hlöður ON eru nú 17 talsins og verða væntanlega orðnar fleiri en 20 fyrir árslok. Þær fyrstu voru settar upp í Reykjavík á árinu 2014. Frá þeim tíma hefur rafbílum sem nýtt geta hlöðurnar fjölgað
úr 94 í 3.684 í ágústlok 2017. Þetta er fertugföldun í fjölda þessara bifreiða sem sífellt fleiri ökumenn kjósa til að komast á milli staða.Ísland er kjörland
rafbílanna „Við ætlum að opna landið fyrir rafbílaeigendum og varða allan hringveginn hlöðum með hrað-
hleðslum. Þessu frumkvæði okkar hefur verið afar vel tekið og þá ekki síður appinu ON Hleðsla. Með því að hlaða smáforritinu niður í símann sinn geta rafbílaeigendur séð staðsetningu stöðvanna og stystu leið að þeim. Þá sést hvort stöðin er laus, upptekin, eða ekki í þjónustu vegna viðhalds eða bilunar. Það er í raun alveg frábært að sjá hvað rafbílum er að fjölga mikið og hratt af því að Ísland er kjörland rafbílanna með alla sína hreinu orku,“ sagði Áslaug Thelma Einarsdóttir, forstöðumaður einstaklingsmarkaðar hjá Orku náttúrunnar, í spjalli við FÍB-blaðið.
43
BÍLAPRÓFUN FÍB MENNTAMÁL
DRAUMURINN AÐ STOFNA VERKSTÆÐI gjörbreyst. Það séu mun fleiri námið spennandi og skemmtilegt. ,,Ég fékk mikinn áhuga á bílum þegar ég var lítil stelpa. Stjúpfaðir minn var alltaf að gera við bíla út í bílskúr og þangað sótti ég öllum stundum. Þetta kveikti á áhuga mínum á bílum og þarna var eitthvað sem mig langaði að leggja fyrir mig í framtíðinni. Ég var bara svo forvitin og naut þess að fylgjast með honum og eftir þetta var ekki aftur snúið. Engu að síður fór ég í framhaldsskóla en fannst nóg komið eftir tveggja ára nám við Menntaskólann á Laugarvatni. Ég átti erfitt með bóknám og ákvað í framhaldinu að sækja um nám í bifvélavirkjun í Borgarholtsskóla,“ sagði Ásrún Halla Loftsdóttir sem nú er bifvélavirki hjá Öskju og unir hag sínum sérlega vel. Hún kemur úr Villingaholtshreppi í Flóa en ólst upp á nokkrum stöðum eins og hún kemst að orði. Hún var ennfremur mikið hjá föður sínum í Gnúpverjahreppi. Ásrún segir að námið í Borgarholtsskóla hafa verið sérlega ánægjulegt, kennararnir góðir og
44
Hún segir að sér hafi verið sérlega vel tekið hjá Öskju, allir hjálplegir, en þær væru reyndar þrjár stelpur að vinna á verkstæðinu þar í dag. Hún hefur starfað hjá Öskju síðan í september á síðasta ári.
Stórkostlegt að vinna við það sem manni þykir skemmtilegt ,,Að vinna við það sem manni þykir skemmtilegt er bara alveg stórkostlegt og vinnuandinn er frábær. Það er mikil munur á því að gera við bíl í dag en fyrir einhverjum árum síðan. Bílar eru orðnir mun tæknivæddari en áður svo við verðum að hafa góða þekkingu á tölvum. Sem dæmi getur viðgerðamaður verið staddur í Reykjavík og gert við bíl á Hornafirði í gegnum tölvur. Mesta breytingin er á þessu sviði og þetta á eftir að taka enn frekari breytingum á næstum árum. Þessu lýkur kannski bara aldrei,“ sagði Ásrún Halla. Ásrún Halla sagði viðhorf til bifvélavirkjunar og þess að stúlkur sæki meira inn á þetta svið hafi
stelpur að koma inn í starfið sem er góð þróun og segir okkur að ungt fólk er farið að horfa meira til verklegs náms en áður.Það getur vel verið að umfjöllunin hafi haft sitt að segja og vakið stelpur til umhugsunar. Stelpur hafa meira þor og skoða hlutina með opnari huga en áður tíðkaðist. -Þegar þú lítur til baka. Ertu ekki sátt við þá ákvörðun að fara í bifvélavirkjun? ,,Jú, ég gæti ekki verið sáttari. Ég er mjög ánægð með þetta val og gæti ekki verið hamingjusamari. Það voru margir hissa á því þegar ég fór í Menntaskólann á Laugarvatni á sínum tíma. Allir áttu von á því að ég myndi fara í bifvélavirkjunina. Það kom því engum á óvart þegar ég hætti á Laugarvatni eftir tveggja ára nám og ákvað að fara að læra bifvélavirkjun. Það er ákvörðun sem ég á aldrei eftir að sjá eftir. Ég valdi rétt, fór inn á rétta braut, þar sem ég fann mig sérstaklega vel,“ segir Ásrún Halla. Aðspurð hvað hafi komið henni
einna helst á óvart í þessu starfi segir Ásrún Halla að það sé hve skemmtilegt þetta starf er. Það sé krefjandi stundum, alltaf jafn skemmtilegt, sama hvað maður gerir. Námið býður upp á marga möguleika ,,Mér finnst að þegar stelpur horfa til framhaldsskólanáms eiga þær að skoða verklegt nám af fullri alvöru. Ef áhuginn er fyrir hendi er það ekki nokkur spurning því verklegt nám býður upp á ótrúlega marga möguleika.“ -Eru ekki svolítil forréttindi að geta gert við bílinn sinn sjálf? ,,Jú, það má alveg segja það. Vinkonur mínar leita stundum til mín til að fá ráð og upplýsingar. Auðvitað er ég alltaf til staðar fyrir þær,“ sagði Ásrún Halla sem var 16 ára gömul þegar hún eignaðist sinn fyrsta bíl. Biðin eftir bílprófinu var erfið en æðislegt þegar stóri dagurinn rann loksins upp. Ásrún Halla segist ganga með þann draum að geta einhvern tíman í framtíðinni sett á stofn sitt eigið verkstæði. ,,Vonandi gengur það eftir, hver veit,” eins og hún kemst sjálf að orði. ,,Kærasti minn er líka bifvélavirki svo við bæði gerum ekkert annað en að vera í kringum bíla alla daga. Umræða um bíla þegar heim er komið að loknum vinnudegi er stundum töluverð, eins og gefur að skilja. Við ræðum saman um hvernig vinnudagurinn hafi gengið og hvað við höfum verið að fást við. Það verður alltaf draumur að stofna sitt eigið verkstæði og vonandi verður það einhvern tíman að veruleika,“ segir Ásrún Halla Loftsdóttir.
BORGARHOLTSSSKÓLI Bíliðngreinar
Bíliðnir eru bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og bílamálun. Tvær fyrrnefndar eru 4 annir eftir grunnnám en sú síðasttalda þrjár annir eftir grunnnám. Námið er aðeins kennt í dagskóla. Bifvélavirkjun er kennd allar annir en inntaka í bifreiðasmíði á haustin en inntaka í bílamálun er óregluleg ýmist haust- eða vorönn. Sérgreinar eru kenndar í lotum. Lota er 1 til 3 einingar. Ein eining er ígildi 28 kennslustunda. Lotan er kennd samfellt, eitt námsefni er tekið fyrir og því lokið með prófi áður en næsta lota er tekin. Kennsla hófst eftir nýrri námskrá í bifvélavirkjun og bílasmíði á haustönn 2014.
Bifreiðasmiðir
Bifreiðasmiðir vinna mest við réttingu og skipti á hlutum eftir árekstra og breytingum á yfirbyggingu bifreiða. Þeir gera einnig við aðra hluta sem gætu hafa skemmst t. d. stýris- og fjöðrunarbúnað. Bílamálarar Bílamálarar mála bifreiðar eftir viðgerð vegna áreksturs eða annarra skemmda. Málarar þurfa að blanda rétta liti ef bifreið er máluð að hluta. Oft þarf að heilmála bifreiðar eftir viðgerð eða breytingu. Bæði bifreiðasmiðir og bílamálarar gera við skemmda plasthluti bifreiða. Bifvélavirkjar Bifvélavirkjar sjá um reglubundið viðhald og viðgerðir á vélbúnaði, hemlum, stýrisbúnaði og ýmsu öðru í stórum sem smáum bifreiðum og vinnuvélum.
45
BÍLAPRÓFUN FÍB FERÐALÖG
ÞAÐ ER ALLS EKKI FLÓKIÐ AÐ KEYRA Á VEGUM Í AMERÍKU
Þ
að er fátt skemmtilegra en að ferðast og gott frí bara gætir og hressir. Fólk ferðast með ýmsum hætti, sumir fara í skipulagðar hópferðar og aðrir kjósa að ferðast á eigin vegum. Ferð á eigin vegum krefst skipulagningar, gott að hafa tímann fyrir sér, því það getur bæði sparað tíma og peninga. Þeir sem á annað borð kynnast því að ferðast á eigin vegum kjósa síðar ekki annan ferðamáta. Hægt er að leigja bíl erlendis og eins fara margir með Norrænu frá Seyðisfirði og taka með sér eigin bíl eða húsbíl. Björn Þórsson húsamiður úr Hafnarfirði og eiginkona hans Kristín Garðarsdóttir hafa farið í nokkrar ferðir til Bandaríkjanna, leigja sér bílaleigubíl og keyra um, heimsækja áhugaverða staði, sem veitir þeim mikla ánægju.,,Við gerum fátt skemmtilegra, þetta er lífið og við njótum þess í botn að vera saman og njóta lífsins,“ segir Björn Þórsson í samtali við FÍB-blaðið. Góður undirbúningur skiptir máli Björn segir að ferðin sem þau hjónin fóru um páskana hafi verið ákveðin í vetur og hafi því fyrirvarinn ekki verið
46
langur. Við reynum eftir mætti að undirbúa okkur vel fyrir hverja ferð en það finnst okkur skipa verulegu máli. Maður nýtur ferðarinnar betur ef hún er skipulögð.
segir Björn Þórisson og hrósar þessum ferðamáta í hástert. Hann segir þau hjónin hafi fengið fínasta veður í ferðinni, milt hafa verið og ekki fallið einn einasti dropi allan tímann.“
,,Það fyrsta sem við gerum er að finna flug og gistingu fyrstu nóttina en eftir það höfum við látið hlutina ráðast. Í síðustu ferð pöntuðum við
Björn segir frá ferðunum sem þau hjónin höfðu áður farið. Ein var til Boston og farið bæði norður fyrir borgina alveg upp til Kanada og í ferð síðar ákváðu þau að fara alveg í hina áttina. Suður fyrir Boston alla leið niður til Virgina Beach, keyrt upp í gegnum Washington og New York og til baka til Boston. Í þriðju ferðinni var flogið til Denver, keyrðum yfir Klettafjöllin, og vorum í 17 daga á ferðalagi. Í ferðinni keyrðum við alveg til Nevada og suður til Las Vegas. Á bakaleiðin fórum við aftur yfir Klettafjöllin og til Denver, stórkostleg ferð í alla staði eins og Björn kemst að orði og ævintýralegasta ferðin sem hjónin hafi farið.
alla gistinguna fyrirfram en alla jafnan gerum við það ekki. Þetta var fjórða ferðin okkur til Bandaríkjanna og í öll skiptin höfum við leigt fólksbíl. Um páskana flugum við á Washington og gistum í Fairfax vestan við borgina. Síðan var ferðinni heitið suður eftir Virginíu, gistum á fjórum mismundandi hótelum, á þeim níu dögum sem við vorum á ferðalagi,“
Skemmtilegur ferðamáti að aka um á bíl ,,Við fáum alveg ofsalega mikið út úr svona ferðamáta og þá má segja að það sé svolítið flökkueðli í okkur. Við
viljum frekar fara víða heldur en að vera á einum stað í viku eða hálfan mánuð. Við erum að hugsa um að fara til Evrópu á næsta ári, þangað höfum aldrei farið um á bíl áður, en reyndar ferðaðist ég þar þegar ég var tvítugur. Við eigum húsbíl og það er stefnan að ferðast á honum um Evrópu, jafnvel næsta sumar,“ segir Björn.
vegum, verður að setja niður hvað það ætlar að skoða. Það er brýnt að undirbúa sig vel og þá er auðveldast að nálgast allar upplýsingar og fróðleik á Netinu. Maður verður að gefa þessu tíma og skipuleggja hlutina. Auðvitað geta upphafleg plön breyst á ferðalaginu sjálfu því við pöntum ekki hótel langt fram í tímann.“
-Hvetur þú fólk að fara svona ferðir. Ferðast á eigin vegum á bílaleigubíl?
Vegirnir góðir og umferðahraðinn þægilegur
,,Já, það geri ég alveg hiklaust en það er lítið mál að vera á ferðinni í Ameríku. Göngum frá fluginu sjálf og notum pöntunarsíður á borð við booking.com mikið. Við höfum hingað til aðallega verið á ferðinni í maí eða í september, október, en það finnst okkur þægilegur tími að ferðast á. Þessar ferðir hafa mikið skemmtanagildi fyrir okkur, fræðumst heilmikið, og kynnumst svæðinu vel sem við förum yfir hverju sinni. Fólk, sem fer í svona ferð á bíl á eigin
Björn leggur áherslu á að það sé mjög gott að keyra um í Bandaríkjunum og heimamenn séu tillitsamir og hjálplegir. Vegirnir góðir og umferðaferðahraðinn sé þægilegur, Hann segist nota sveitavegina töluvert, og á þeim ferðist þau hjónin mikið á milli staða. Ég hvet fólk eindregið til að skoða þennan kost og þetta er alls ekki flókið. Hann sagði að þau hjónin væru ekki alltaf að fara á veitingastaði heldur versluðu þau brauð, álegg og annað meðlæti. Borðuðu í bílnum eða
settust niður á fallegan stað. Löngun að fara með húsbílinn til Evrópu ,,Nú erum við farin að velta fyrir okkur hvert sem halda næst. Það löngun að fara með húsbílinn til Evrópu og það er alveg möguleiki á því að við látum verða af því næsta sumar. Ég hef aldrei prófað að leigja húsbíl erlendis en eflaust er það fínn kostur fyrir marga. Við myndum fara á okkar húsbíl með Norrænu til Danmerkur og aldrei að vita nema einhverjir myndu slást í för með okkur sem er alltaf skemmtilegra,“ sagði Björn Þórisson í samtali við FÍB-blaðið.
47
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
LAND ROVER DISCOVERY 5 HSE TDV6
FÆRASTI JEPPINN “ÚR KASSANUM”
F
immta kynslóð hins þaulreynda Land Rover Discovery lenti nýverið á Íslandi. Hornrétt og ferköntuð hönnun fyrri kynslóða víkur fyrir ávalari, flæðandi línum. Þá er andlitsfalli hinna afurða Land Rover framleiðandans splæst saman við nýja bílinn. Í anda Discovery ættarinnar er staðsetning númeraplötunnar að aftan ósamhverf, en ólíkt fyrri bílum er öll afturrúðan samt samhverf. Útkoman er heldur torkennileg í augum einstaklings sem þótti fráfarandi bíllinn einn sá myndarlegasti allra jeppa, en segja þó sumir sem samsinna þeirri skoðun (og ekki einungis starfsmenn BL) að útlit nýja bílsins venjist hratt. Ég bíð þá og vona. Reynsluakstursbíllinn kom í HSE útfærslu með þriggja lítra forþjappaðri V6 dísilvél sem skilar 258 hestöflum og 600 Nm af til allra fjögurra hjóla í gegnum 8-þrepa ZF gírkassa. Til að tryggja að öll þessi afköst hafa einhverja þýðingu í torfærum kemur bíllinn með millikassa með háu og lágu drifi ásamt rafstýrðu Terrain Response 2 48
- kerfi. Kerfið býr yfir sér-forrituðum stillingum á mismunadrifunum, skriðvörninni og ABS hemlunum fyrir mismunandi undirlag sem ekið er yfir; malbik, möl, snjó, gras, leðju, sand og grjót. Staðalbúnaður á öllum bílum seldum á Íslandi er rafstýrð loftpúðafjöðrun sem gerir utanvegaeiginleika enn magnaðri. Með venjulegri gormafjöðrun er veghæð undir lægsta punkt 220 mm, en með loftpúðafjöðruninni í hæstu stöðu er hún heilir 284 mm. Það sem ekki síst er vert er að hafa í huga fyrir torfæruakstur er aðkomuhornið (flái að framan) sem er 34°, brottfararhorn (flái að aftan) er 30° og fríhornið (hornið sem bíllinn “vegur salt yfir”) er 27,5° á loftpúðafjöðrun. Þetta samsvarar sé í fáheyrðu vaðdýpi upp á heila 900 mm. Í ofanálag er nýi Disco 5 um 200 kílóum léttari en sambærileg útfærsla fjórðu kynslóðarinnar, þökk sé m.a. aukinni notkun áls. Heildarþyngd bílsins er því um 2.230 kíló. Að innan skartaði Discóinn mjúkum, sólbrúnum leðursætum, möttum og áferðarljúfum viðarlistum í mælaborði og hurðum, snyrtilegum áhersluflötum
úr burstuðu áli hér og þar og svörtu leðri annars staðar. Gæðatilfinningin var algjör og greinilega engu til sparað. Öll sjö sæti bílsins eru rafstýrð. Fella má aftari tvær raðirnar niður með tökkum í skotti bílsins, í upplýsingaskjánum milli framsætanna eða, eins fáránlega og það hljómar, með sérstöku Land Rover appi í símanum. Einstaklega hentugur fídus ef öll sætin eru upprétt þegar staðið er í röðinni við kassann eftir að hafa slysast til að skella hjólbörum og gasgrilli í innkaupakerruna í Costco. Þó hryllir mann við tilhugsunina ef þessir rafmótorar taka upp á því að gefa upp öndina akkúrat þegar kemur að því að skutla börnunum og vinum þeirra í röð fyrir framan nýlentan kleinuhringjastað. Þá eru sætin talsvert svifasein og þrýtur þolinmæði notanda fljótt þegar beðið er eftir vandlega skipulögðu samanbroti sætanna á meðan notendur flestra annarra bíla taka í eina sveif sem fellir niður sætin á augabragði. Akstursstaða ökumanns er góð og tignarleg, rúður eru stórar og gott útsýni er úr bílnum á alla kanta. Gott pláss er fyrir farþega miðjuraðar og má
færa þau sæti fram og aftur, eftir því hvort þörf er á meira farangursrými eða fótarými fyrir farþega öftustu raðar. Glasahaldara og sætishitara er að finna fyrir alla sjö farþega bílsins. Þá tryggja þýð loftpúðafjöðrun og feiknamikill massi bílsins mjúka og þægilega reið yfir hraðahindranir, þvottabretti, ár og grjót. Aflið og togið er fullnægjandi, alls ekki yfirþyrmandi, og skilar þessari rúmlega 2,2 tonna sleggju frá kyrrstöðu í 100 km/klst á 8,1 sekúndu. Þegar kom að krefjandi torfæruakstri var tæknibúnaður Discovery velkominn og gerði yfirferðina mun þægilegri. Hægt var að kveikja á hinum og þessum myndavélum, en sérstaklega skemmtilegt var að varpa upp á skjáinn mynd úr framstuðaranum þegar ekið var yfir á og myndum úr hliðarmyndavélum þegar ekið var um þröngt bil milli hvassra grjóthnullunga. Einnig var hægt að varpa upp grafík sem sýndi beygju og halla allra hjóla, mismunandi læsingu drifa auk hallamáls á lang- og þverveginn. Fyrir jeppafólk af gamla skólanum kann þetta að hljóma eins og óþarfa frat, en ekki er hægt að neita að búnaðurinn sé áhugaverður
Land Rover Discovery 5 HSE TDV6 Grunnverð: 12.190.000 kr Vél: 3,0 lítra V6 dísilvél með forþjöppu Afköst: 258 hestöfl / 600 Nm og sýnir á skýran hátt hvernig drifbúnaðurinn virkar. Einu athugasemdirnar sem koma upp í hugann eru, sem áður segir, fagurfræðilega krefjandi útlitið og svifaseinu rafmagnssætin. Ennfremur kostar hann vissulega sitt; reynsluakstursbíllinn kom í áðurnefndri HSE útfærslu með ýmsum aukabúnaði sem skilar sér í lokaverði upp á 15.890.000 kr. Grunnverð HSE útfærslunnar með þessari vél er 12.190.000 kr, sem er þó ódýrari en fyrirrennarinn. Grunnverð grunnútfærslu með fjögurra strokka, 180 hestafla dísilvél án lága drifsins er 8.990.000 kr. En að lokum, í stuttu máli sagt, er Land Rover Discovery 5 færasti jeppi “úr kassanum” sem undirritaður hefur ekið. Róbert Már Runólfsson
Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 7,2 l/100 km (blandaður akstur) Eldsneytisnotkun (raunakstur): 9,1 l/100 km (blandaður akstur) Losun CO2: 189 g/km
Verð á reynsluakstursbíl: 15.890.000
•
Drifbúnaður og stillanleiki
•
Torfæruupplýsingar í skjá og myndavélar
•
Torfærugeta
•
Gæðatilfinning innanrýmis
•
Þýð fjöðrun utan sem innan vega
•
Vafasamt útlit (huglægt mat) Svifasein sæti 49
BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR
FÉKK AÐILD AÐ FÍB Í GJÖF ÞEGAR BÍLPRÓFIÐ VAR Í HÖFN
M
oritz Wilhelm Sigurðsson er yngsti félagsmaðurinn í Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. Sjö mánuðir er síðan hann fékk bílprófið í hendurnar en aðildina að FÍB fékk hann í bílsprófsgjöf. ,,Það er ofsalega gaman að vera búinn að fá bílprófið. Því fylgir mikil ábyrgð og margt sem ber að varast þegar út í umferðina er komið. Ég var búinn að bíða óþreyjufullur eftir þessum áfanga og það var alveg sérstök tilfinning þegar sá dagur loksins rann upp. Það fylgir því ákveðið frelsi að hafa bílpróf og og ég keypti mér fljótlega gamlan Nissan sem hefur reynst mér alveg ágætlega,“ sagði Moritz Wilhelm í samtali við FÍB blaðið. Hann sagðist alveg finna fyrir því að það fylgir því vandi að keyra í umferðinni. Það skiptir bara öllu að hafa athyglina í lagi, keyra varlega og öryggið sé alltaf sett á oddinn. Það er
gaman að eiga sinn eigin bíl og góð tilfinning að geta gengið inn í sinn bíl. Því fylgir frelsi og maður er fljótari að koma sér á milli staða. Hvet alla á mínum aldri að gerast félagar í FÍB ,,Þegar bílprófið var í höfn var mér gefin aðild að FÍB. Ég kynnti mér hvaða þjónusta fylgdi þeirri aðild og
Þ
ÞJÓÐVERJAR TEFJA FYRIR SAMÞYKKI STRANGARI LOSUNARPRÓFANA 50
jóðverjar eru mjög andsnúnir nokkrum lykilþáttum í endurskoðunarvottorði ökutækis. Endurskoðunarvottorðið felur í sér að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fái víðtækari eftirlitsheimildir, þar með talið rétt til að leggja sektir á bílaframleiðendur um allt að 30.000 evrur á ökutæki ef ekki er farið eftir settum reglum. Þessu eru Þjóðverjar ekki sammála, þeir vilja að prófun og vottun ökutækja sé frekar hjá hverju ríki fyrir sig. Þetta er haft eftir fréttastofu Reuters. Því leggja þeir til að sjálfstæði og
komst að því að ýmsir möguleikar bjóðast, raunar miklu fleiri en ég hafði gert mér í hugarlund. Mér finnst að allir bílaeigendur ættu að vera í FÍB en þetta er félag sem veitir góða þjónusta og upplýsingar sem snúa að þáttum bílsins. Ég hvet hiklaust alla á mínum aldri að gerast félagar í FÍB en því fylgir ákveðin öryggistilfinning,“ segir Morits Wilhelm Sigurðsson. eftirlit yfirvalda sé eflt. Ökutæki skuli prófuð á vottuðum skoðunarstöðvum sem reknar eru af viðurkenndri stofnun í stað þess að þau séu prófuð af framleiðanda eins og nú er. Fyrir utan Þýskalandi voru Ítalía, Frakkland og Spánn einnig sökuð um að tefja fyrir samþykki strangari losunarprófana. Enginn framleiðandi annar en VW hefur verið fundinn sekur um að hafa sett upp búnað sem er hannaður eingöngu til að sniðganga losunarpróf. Eftirlitsstofnanir í Bretlandi og Þýskalandi komust að því að bílaframleiðendur hafa stuðst mikið við notkun hitauppstreymis sem hefur gert þeim kleift að slökkva á mengunarvarnarbúnaði í þeim tilgangi verja vélina á kostnað umhverfisins.
DAGSVERK MEÐ FÉLAGSMÖNNUM Í YFIR 30 ÁR
F
ÍB hefur átt mjög gott samstarf við Dagsverk ehf á Egilsstöðum í yfir þrjá áratugi. Dagur Kristmundsson stofnandi og eigandi fyrirtækisins hefur verið ,,kallinn í brúnni” allan þennan tíma. Fjölskylda Dags hefur tekið virkan þátt í starfi og þjónustu fyrirtækisins frá upphafi og núna er Kristmundur Dagsson virkur í rekstrinum með föður sínum. Dagsverk er eitt af öflugum samstarfsfyrirtækjum FÍB Aðstoðar vítt og breitt um landið. Þjónustusvæði Dagsverks er mjög víðfemt bæði á Héraði og niðri á fjörðum. Þjónustulipurð og lausnamiðað verklag hefur einnkent vinnubrögð þeirra feðga og starfsmanna þeirra allan samstarfs tímann.
Hér á myndinni eru frá vinsti: Kristmundur Dagsson, Dagur Kristmundsson og Benedikt Blöndal samstarfsmaður þeirra feðga. Myndin var tekin nú í haust þegar fulltrúi FÍB Aðstoðar heimsótti þjónustuaðila FÍB Aðstoðar á Austurlandi.
NÝR ÞJÓNUSTUAÐILI Á ÓLAFSVÍK ÍB býður félagsmönnum uppá vegaaðstoð víða um land þar sem boðið er uppá dekkjaaðstoð,
F
startaðstoð, eldsneytisaðstoð og dráttarbílaþjónustu. FÍB hefur trausta fagaðila á hverjum stað sem standa vaktina og þjónusta félagsmenn þegar kallið kemur. Nýr vegaaðstoðaaðili bættist í hópinn í sumar á Ólafsvík, Bílaaðstoð og flutningar þar sem Birgir Tryggvason er við stjórnvölinn. FÍB býður Birgi og hans fólk hjartanlega velkomin í hópinn og erum við sannfærð um að félagsmenn eiga eftir að njóta góðrar þjónustu frá Ólafsvík í framtíðinni.
Birgir Tryggvason og Grímur Erlendsson.
51
HJÓLBARÐAR AFSLÆTTIR TIL FÉLAGSMANNA
SHOW YOUR CARD SYC afsláttarklúbbur bílaklúbba!
Innanlands
Jóhannes Karlsson 250467-4999 018887
52
Snjallforrit fyrir bæði Apple og Android
Félagsmenn FÍB hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbi í heimi. Show your Card! er landamæralaus afsláttarklúbbur bílaklúbba. Tugþúsundir staða út um allan heim sem gefa afslátt. Ef þú ætlar að leigja bíl í fríinu, kaupa hótelgistingu, fara í dýragarðinn, vatnagarðinn eða á söfn, kannaðu Show your Card! afsláttinn inni á fib.is áður en þú ferð og ferðakostnaðurinn minnkar. Mundu eftir FÍB félagsskírteininu það opnar þér aðgang.
10%
FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999,
OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS
53
BIFREIÐAÞJÓNUSTA
Skemmuvegi 44m Kópavogi · www.bilarogtjon.is Avis bílaleigubílar á staðnum
Vantar
NÝJA lykla? Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Húslyklar Lyklakerfi Sílendrar
Láshús og fylgihlutir Peningaskápar Hurðapumpur
Skútuvogi 11 . www.las.is . s: 510 8888 Opið alla virka daga 8-18 . laugardaga 10-14
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
5454
Aðalskoðun hf. Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði Sími 590 6900 www.adalskodun.is Skeifan 5 (hjá vínbúðinni) sími 590 6930 Grjóthálsi 10 (við vesturlandsveg) sími 590 6940 Skemmuvegur 6, Kópavogi sími 590 6935 www.adalskodun.is Frumherji hf. Hestshálsi 6-8, Reykjavík Skeifunni (Grensásvegi 7) Reykjavík Gylfaflöt 19, Grafarvogi, Dalvegi 22, Kópavogi Garðatorgi, Garðabæ, Sími 570 9090 frumherji.is Dalshraun, Hafnarfjörður, Sími 570 9217 Tékkland Borgartún 24, 105 Reykjavík Holtagarðar, Reykjavík s. 414-9914 Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður s. 414-9912 Dalsbaut 1, Akureyri sími. 414-9916
BÍLAHÚS
Bergstaðir - Bergstaðastræti 6, 101 Rvk. Kolaport - við Seðlabanka Íslands, 101 Rvk. Ráðhúskjallari - við Ráðhús Reykjav. 101 Rvk. Stjörnuport - Laugavegi 94, 101 Rvk. Traðarkot - Hverfisgötu 20, 101 Rvk. Vesturgata - Vesturgötu 7, 101 Rvk. Vitatorg - Skúlagötu/Vitastíg, 101 Rvk. Nánari upplýsingar www.bilastaedasjodur.is
BÍLARÉTTING, SPRAUTUN,TJÓNAMAT
Arctic trucks ehf. Klettshálsi 3, 110 Reykjavík Sími 540 4900, www.arctictrucks.is A.B. skálinn, Gagnheiði 11, Selfossi s. 482 2200 Bifreiðaverkst.Kaupf. Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími. 455 4570 fax.455 4571 Bílamálun Egilsstöðum ehf. Fagradalsbraut 21 Sími 471 2005, 700 Egilsstöðum, Bílamálunin Lakkhúsið, Smiðjuvegi 48 200 Kópavogi, Sími 567-0790, www.lakkhusid.is Bílar og tjón ehf.Skemmuvegi 44m Bleik gata 200 Kópavogi, Sími 578 5070, www.bilarogtjon.is Bílasprautun og réttingar Hjartar Smiðjuvegi 56 rauð gata, Kópavogi, S.587 9020, rettingar.is Bliki- Bílamálun og réttingar ehf, Smiðjuvegi 38 gul gata, 200 Kópavogi,S.567 4477 Bílverk BÁ ehf, Gagnheiði 3, 800 Selfossi Sími 482 2224, Fax 482 2354 www.bilverkba.is 5 stjörnu vottað, bilverkba@simnet.is Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík S. 567 8686 Lakkskemman ehf.Skemmuvegi 30, blá gata 200 Kópavogi, Sími 557 4540 Réttingaverk ehf,Hamarshöfða10,RvkS.5674343 Réttingaþjónustan ehf, Smiðjuvegi 40, gull gata Kópavogi, s. 557 6333, rettingathjounstan@itn.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Réttur – bílaréttingar, Funahöfða 17, 108 Reykjavík s. 587 6350, F 587 6351, rettur.net Smáréttingar ehf. – Réttingaþjónusta Smiðjuvegi 36 gul gata, 200 Kópavogi S.588 4644 Víkur-ós ehf, Bæjarflöt 6, 112 Reykjavík Sími 587 7760, Fax 587 7761, www.vikuros.is
BÍLASÖLUR
Bílver ehf. Innnesvegi 1, Akranesi s.431 1985, Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 471 1436, Nýir og notaðir
BÍLAVARAHLUTIR
AB Varahlutir, Bíldshöfða 18, Rvk, s.567 6020 E.T. Einar og Tryggvi, Klettagarðar 11 Rvk, S. 568 1580, F. 568 0844 www.et.is Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík Sími 520 8000, www.stilling.is Volvovarahlutir.is Parts4u.is, Febest.is Varahlutaverslunin Kistufell ehf, Brautarholti
105 Reykjavík, Sími 562 2104, www.kistufell.is Mekonomen, Smiðsbúð 2, 210 Garðabær, Símli 527 2300, www.mekonomen.is Ljósboginn ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík Sími 553 1244, ljosboginn@simnet.is
BÍLAUMBOÐ
Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sími: 590 2100, www.askja.is Bernhard, Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík Sími: 520 1100, www.bernhard.is Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8, 110 Reykjavík Sími: 5157000 www.brimborg.is BL, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 525 8000 www.bl.is Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, 110 Reykjavík Sími: 590 2000, www.benni.is Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Toyota, Kauptún, Garðabær Sími: 570 5070, www.toyotakauptuni.is Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími: 568-5100, www.suzuki.is
ALMENN BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, rauð gata, Kópavogi Sími 557 2540, Verkstæði/smurþjónusta, bilhusid.is Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d, rauð gata 200 Kópavogi, Sími 557 6400, Fax 557 7258 Bifreiðaverkstæðið Baugsbót, Frostagötu 1b, 603 Akureyri S.462 7033, Metanísetningar Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar Smiðjuvegi 22, græn gata, 200 Kópavogi Sími 567 7360, Fax 557 7374, www.bfo.is Bifreiðaverkstæði Grafarvogs ehf, Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík, Sími 577 4477, Þjón. Bílabúð Benna Bifreiðaverkstæði Jónasar, Skemmuvegi 46, 200 Kópavogur, sími 557 1430. www.jonasar.is Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri Iðjuvöllum 5, 880 Kirkjubæjarklaustri S.487 4630, Gsm 820 4515, Verkstæði, hjólbarðaverkstæði, Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, S.455 4570 F.455 4571 Bifreiðaverkstæðið Pardus. Suðurbraut 565 Hofsósi, S.453 7380 pardus@pardusehf.is, Bílanes – Grandanes ehf. Bygggörðum 8, 170 Seltjarnarnesi S.561 1190, GSM 698 2212. Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, Almennar viðgerðir. Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 4705070, www.bva.is Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílaþjónusta Péturs ehf, Vallholti 17, 800 Selfossi Sími 482 2050, Alhliða viðgerðaverkstæði, smurstöð Bíljöfur bifreiðaverkstæði ehf. - biljofur.is Smiðjuvegi 34, 200 Kópavogi, Sími 544 5151 Bílstál ehf, Askalind 3, Kópavogi Sími 564 4632 Bílver ehf, Innnesvegi 1,300 Akranesi S. 431 1985 Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Jeppasmiðjan ehf,Ljónsstöðum Árborg 801 Selfossi Sími 482 2858, Fax 482 1004, Varahlutir/breytingar Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi S. 564 1268, Þjónusta fyrir Renault, Hyundai, Land Rover, BMW Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Vélastilling sf, Auðbrekku 16, 200 Kópavogur
Sími 554 3140, Fax 564 4460, velastilling@simnet.is Vélrás Bifreiða- og vélaverkstæði velras@velras.is Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Sími 577 6670
BÍLSKÚRSHURÐIR OG OPNARAR
BIFREIÐAÞJÓNUSTA
BIFREIÐASKOÐUN
Glófaxi ehf. blikksmiðja, Ármúla 42, 108 Reykjavík Sími 581 2900, Fax 588 8336, www.glofaxi.is Héðinn, Gjáhellu 4, Hafnarfjörður, Sími 5692100 Bílskúrshurðaþjónustan, sími 892 7285
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐVAR Bílaþvottastöðin Löður ehf, Sími 544 4540, www.lodur.is
HJÓLBARÐAR OG ÞJÓNUSTA
Barðinn Skútuvogi 2, Reykjavík, s. 568-3080. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími 455 4570 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, bilvogur@simnet.is Dekkjahöllin, Skeifan 5, 108 Reykjavík, S.581 3002 Draupnisgata 5, 600 Akureyri S. 462 3002 Þverklettar 1, sími 471 2002, www.dekkjahollin.is Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hátúni 2a 105 Reykjavík, Sími 551 5508 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Gylfaflöt 3 112 Reykjavík , Sími 567 4468 Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Sólning hf, Smiðjuvegi 68-70, 200 Kópavogi Sími 544-5000, www.solning.is Njarðvík, Fitjabraut 12, s.421-1399 Selfossi, Austurvegi 52, s,482-2722 Hafnarfjörður, Rauðhellu 11, s. 568-2035 Hafnarfjörður, Hjallahraun 4, s. 565-2121 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is
PÚSTÞJÓNUSTA
Kvikk Þjónustan, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Drangahrauni 1, Hafnarfirði, s. 520 0600 kvikk.is
KERRUR OG DRÁTTARBEISLI
Vagnar og þjónusta,Tunguhálsi 10, Rvk s.567 3440
VERSLUN, LÁSASMIÐIR OG ÞJÓNUSTA
Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík Sími 567 2330, Fax 567 3844, bilasmidurinn.is Neyðarþjónustan lykla- og lásasmiður Skútuvogur 11, Reykjavík, s.5108888 Neyð.8006000
RAFGEYMAR OG ÞJÓNUSTA
Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17, 220 Hafnarfirði Sími 565 4060, www.rafgeymar.is Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík S. 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Skorri ehf, Bíldshöfða 12, 110 Reykjavík Sími 577 1515, Fax 577 1517, www.skorri.is
SJÁLFSKIPTIVIÐGERÐIR
Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi,S. 564 1268
SMURSTÖÐVAR
Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 14 00, bilaattan@bilaattan.is Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Smurstöðin Fosshálsi, Fosshálsi 1, Rvk s.567 3545 Smurstöðin Akranesi, Smiðjuvöllum 2, S.431 2445 Stimpill ehf, Akralind 9, Kópavogi, Sími 564 1268 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is
VINNUVÉLAR
Vélfang ehf, Gylfaflöt 32, 112 Reykjavík Sími 580-8200, velfang@velfang.is www.velfang.is
55
Númer 1 í Þú Þýskalandi gerir ekki
betri kaup!
Liqui Moly hefur verið valið í fjórum sjálfstæðum könnunum í Þýskalandi, besta vörumerkið í olíuvörum fyrir bíla. Nútíma vélar þurfa bestu smurog hreinsiefnin til þess hámarka nýtinguna á eldsneytinu og * lágmarka mengandi skv. FÍBútblástur samkvæmt ríkjandi mengunarstöðlum.
Áberandi gott
Winter i'cept
Ipike W419
Kornadekk
Liqui Moly sérhæfir sig í efnavörum fyrir bíla og framleiðir öll smurefni samkvæmt stöðlum *samkvæmt dekkjaprófun bílaframleiðenda. haustið 2014
Notaðu Liqui Moly efnavörur og þú hámarkar virkni vélarinnar en lágmarkar eyðsluna.
Er ekki kominn tími til að nota Liqui Moly á bílinn þinn? Skútuvogi 2, Rvk
Sími 568 3080
Fitjabraut 12, Njarðvík
Austurvegi 52, Selfossi
Smiðjuvegi 68-72, Kóp
Hjallahrauni 4, Hfj
– Síðan 1941 –
– Síðan 1941 – 56 56
Skútuvogi 2, Rvk
Sími 568 3080
Smiðjuvegi 68-72, Kóp
Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík
Austurvegi 52, Selfossi
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is