3.tbl. 2019
hraðaksturssektir ferðamanna felldar niður í 95% tilfella
bílasala færð til fortíðar?
VETRARDEKKJAKÖNNUN 2019 1
Mosfellsbæ Kirkjustétt Starengi Knarrarvogi Skúlagötu Háaleitisbraut
Bíldshöfða
Skeifunni
Öskjuhlíð
Sprengisandi
BYKO Breidd
Kópavogsbraut
Búðakór Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi)
Kaplakrika
Hafnarfjarðarhöfn
Egilsstöðum Fagradalsbraut 15
Stykkishólmi
Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi
VELDU ÞÍNA STÖÐ! Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika* Hveragerði Kjalarnesi Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ
Reykjanesbæ - Stapabraut Reykjanesbæ - Hólagata Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Háaleitisbraut Reykjavík - Kirkjustétt Reykjavík - Knarrarvogi Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi* Reykjavík - Starengi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum *afsláttarlaus stöð – okkar langlægsta verð.
ATLANTSOLÍA
FÍB
FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 15 krónu afslátt á valinni Atlantsolíustöð.
2
Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.
MEIRA FYRIR
FÍB FÉLAGA
HJÁ ATLANTSOLÍU 15 kr
afsláttur
EF KEYPT ER 150 L EÐA MEIRA
EF KEYPT ER 150 L EÐA MINNA
12+3 KR 10+3 KR
3
Tryggja þarf neytendaöryggi og fagmennsku í bílaviðskiptum Fulltrúar FÍB áttu fund á liðnu sumri með Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur neytenda- og viðskiptaráðherra. Hún var m.a. hvött til að dusta rykið af fyrirliggjandi frumvarpsdrögum um eflingu laga um bifreiðaviðskipti. Farið var yfir mikilvægi þess að auka á fagmennsku og tiltrú neytenda á þessum markaði í kjölfar
ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson Höfundar efnis Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Runólfur Ólafsson Stefán Ásgrímsson Ólafur Hauksson Prófarkalestur Snorri G. Bergsson Ljósmyndir Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Stefán Ásgrímsson Forsíðumynd Karl Ingimarsson Umbrot/Auglýsingar Björn Kristjánsson bjorn@fib.is Prentun Prentsmiðjan Oddi UPPLAG 18.000 FÍB-blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 8.220.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is
4
Procar–svindlsins. Ráðherra tók vel í málaleitan FÍB án þess að gefa afdráttarlaus svör. Nú í haust voru fulltrúar FÍB og Bílgreinasambandsins (BGS) í tvígang boðaðir til fundar í ráðuneytinu um skipan bílasölumála. Kynntar voru hugmyndir ráðherra um einföldun regluverks í stjórnsýslunni m.a. um niðurfellingu leyfisveitinga fyrir sölu notaðra ökutækja, þ.m.t. kröfu um námskeið og próf fyrir bílasala og starfsábyrgðartryggingu. FÍB og BGS mótmæltu þessum áformum ráðherra og vöruðu við því að þessi vegferð drægi alvarlega úr réttarstöðu neytenda og skapaði hættu á svikum og ófaglegum vinnubrögðum. Lög um bílaviðskipti voru sett að gefnu tilefni fyrir 25 árum og viðskiptaumhverfið batnaði umtalsvert í kjölfarið. Núverandi stöðu þessara mála er ágætlega lýst í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu í september 2018. Á blaðsíðu 10 segir: „Viðskipti af ýmsu tagi, svo sem fasteignaviðskipti, bílaviðskipti og þess háttar, fara fram í andrúmslofti trausts þar sem fólk virðist litlar áhyggjur hafa af því að það verði hlunnfarið ef það gætir sín ekki.“ Ráðherra lagði fram drög að frumvarpi um afnám reglna um sölu ökutækja þvert á ráðleggingar FÍB og BGS. Niðurfelling leyfa er uppgjöf og þvert á þá skyldu neytendaog viðskiptaráðherra að tryggja neytendavernd, fagleg vinnubrögð og heilbrigða viðskiptahætti. Nú hafa 93 fyrirtæki hafa leyfi til sölu notaðra ökutækja og mikil viðskipti eru í beinni sölu á milli neytenda á Netinu. Hjá bílasölufyrirtækjum starfa á fjórða hundrað sölumanna sem hafa setið löggildingarnámskeið fyrir bílasala og staðist próf. Velta af sölu notaðra ökutækja ár hvert er 60-80 milljarðar króna. Á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu er rætt um leiðir til að
koma böndum á óviðunandi ástand í bílaviðskiptum. Fagaðilar í Evrópu hafa horft sérstaklega á ,,íslenska módelið“ sem leið til að bæta viðskiptasiðferði og neytendavernd. Það veldur vonbrigðum að ráðherra neytenda- og viðskiptamála boði niðurrif á einföldu kerfi sem fulltrúar atvinnulífsins og neytenda vilja efla frekar en rífa niður. Farsi um hraðasektir erlendra ökumanna Í þessu FÍB–blaði er úttekt á stöðu hraðabrota með hraðamyndavélum yfir tíu ára tímabil. Fram kemur að í 95% tilvika hafa hraðabrot vegna bíla í eigu fyrirtækja verið felld niður. Árið 2018 voru yfir 11.000 hraðabrot í hraðamyndavélum vegna bílaleigubíla. Langflestir bílstjórar bílaleigubíla sem aka of hratt hjá hraðamyndavélum borga hvorki sekt né fá tilkynningu um brot sín. Aðeins 1% einstaklinga með lögheimili á Íslandi komust undan því að borga sekt. Ríkissjóður verður fyrir tekjutapi sem nemur hundruðum milljóna króna árlega vegna niðurfellingar hraðasekta erlendra ferðamanna. Alþingi hefur ekki tekið á þessari framkvæmd og sama á við um framkvæmdavaldið. Er eðlilegt að sleppa því að innheimta árlega um kvartmilljarð í hraðasektir af erlendum gestum? Þetta vinnur gegn allri skynsemi. Væri ekki nær að nota þessa fjármuni í brýn verkefni, t.d. aukna löggæslu? Hvað með forvarnarog umferðaröryggissjónarmiðin? Eiga jafnræðisreglur ekki við um hraðasektir vegfarenda? Enginn ber ábyrgð og þetta gerist með fullri vitund löggjafar- og framkvæmdavaldsins. Þessu er hægt að kippa í liðinn með lagabreytingu og bættu verklagi.
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri
40%
afsláttur
Nú er ódýrara að hlaða bílinn því heimili í viðskiptum við ON fá 40% afslátt í hraðhleðslum okkar um allt land með ON lyklinum. Kynntu þér málið á www.on.is
ORKA NÁTTÚRUNNAR Þjónustusími allan sólarhringinn: 591 2700 · www.on.is
5
FÍB BLAÐIÐ Ekki er til setunnar boðið enda verkefnin ærin Ráðamenn þjóðarinnar virðast nú vaknaðir upp af þyrnirósarsvefni hvað samgöngumál áhrærir. Það var heldur betur kominn tími til að bretta upp ermar í þeim efnum því að allir sem fara um vegakerfið sáu fyrir löngu að ekki væri vanþörf á að taka til hendi. Nú virðist blasa við framtíðarsýn, byggja á upp og bæta innviði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þetta gerist ekki á einni nóttu en markmiðin liggja á borðinu þegar litið er til næstu 15 ára. Víst má telja að ástand samgöngukerfisins og vega almennt í landinu væri miklu betra ef skattar og skyldur sem bíleigendur borga nú þegar rynnu alfarið til vega. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur margoft ítrekað og haft áhyggjur af áformum um nýja bílaskatta á fjölskyldurnar í landinu ofan á þá 80 milljarða króna sem bíleigendur borga nú þegar í formi skatta og gjalda á bíla og umferð. Hugmyndum um veggjöld harðlega mótmælt af hálfu FÍB Lengi vel hafa verið uppi áform um veggjöld og gjaldtöku á stofnleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu og alla tíð hefur þessum hugmyndum verið mótmælt kröftuglega af hálfu FÍB. Eins hefur komið fram að Alþýðusamband Íslands myndi ekki samþykkja veggjöldin án þess að annað kæmi í staðinn til að vega upp á móti. Veggjöldin væru algerlega óútfærð og því erfitt að vera með þeim eða á móti. Á kynningarfundi á uppfærðri og endurskoðaðri samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034 sem samgönguog sveitarstjórnarráðuneytið efndi til í október leiddi endurskoðun samgönguáætlunarinnar það 6
af sér að fallið hefur verið frá gjaldtöku á stofnleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu. Það eru góð tíðindi sem bíleigendur fagna. Aðrar leiðir eru færar til fjármögnunar, peningar eru að hluta til staðar en fara því miður ekki í þær framkvæmdir sem þeirra var aflað fyrir. Samgöngur og innviðir setið á hakanum í mörg ár Þrátt fyrir allt er margt jákvætt að finna í annars vegar sáttmála ríkisins og sex sveitarfélaga um uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á næstu 15 árum og hins vegar í uppfærðri og endurskoðaðri samgönguáætlun fyrir árin 20202034 sem samgönguráðherra kynnti á dögunum. Sáttmálinn um höfuðborgarsvæðið gerir ráð fyrir 120 milljarða framkvæmdum í samgöngumannvirkjum á tímabilinu. Bein framlög til samgöngumála, sem Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra kynnti, nema alls tæpum 633 milljörðum króna á fimmtán ára tímabili samgönguáætlunar en þar af falla tæpir 560 milljarðar til vegagerðar. Það var svo sannarlega kominn tími til að spýta í lófa í þessum málum enda hafa samgöngur og allir innviðir setið á hakanum í mörg ár. Ekki er til setunnar boðið og verkefnin eru ærin.
Efnisyfirlit 8 Notendur fá reikninginn. 10 Háar hraðasektir afskrifaðar 14 Sáttmáli ríkisins og sveitarfélaga 16 Þörf á úrbótum um allt land 18 Niðurfelling leyfisveitingar gagnrýnd 19 Þjónustunet FÍB Aðstoðar stækkað 20 Vetrardekkjakönnun FÍB 2019 34 Rúðuvökvakönnun 36 Reynsluakstur Mazda CX 30 38 Reynsluakstur Opel Ampera-E 40 Eldsneyti dýrast á Íslandi 41 Miklabraut lögð í stokk? 42 Bíll ársins á Íslandi 43 Verðlaunin skipta máli 45 Ferðalag um Evrópu 50 Þorvaldur koppasali 51 FÍB Aðstoð í Borgarnesi 52 Continental frábær viðbót 53 Ný skoðunarstöð í Hafnarfirði
Jón Kristján Sigurðsson Ritstjóri
SUZUKI S-CROSS
ÖRUGGUR FERÐAFÉLAGI
Hönnuðir Suzuki hafa náð að sameina þægindi fólksbíls og öryggi jeppans í Suzuki S-Cross. Fjórhjóladrifið og mikil veghæð gera hann öruggan og rásfastann, mikið afl og skemmtilegir aksturseiginleikar gera Suzuki S-Cross ótrúlega þægilegan borgarbíl. Suzuki S-Cross er sérlega rúmgóður og með ríkulegan staðalbúnað.
4X4 SUZUKI S-CROSS ER FJÓRHJÓLADRIFINN
Suzuki á Íslandi
Fáðu nánari upplýsingar á suzuki.is
7
Suzuki bílar hf. I Skeifunni 17 I Sími 568 5100
Stórátak í samgönguframkvæmdum
Notendur einkabílsins Boðað stórátak í samgönguframkvæmdum um land allt er mikið fagnaðarefni, ekki síst þær úrbætur sem áformaðar eru á höfuðborgarsvæðinu. Óhætt er að klappa Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra á bakið fyrir að koma áætluninni saman, ekki síst að fá sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu til að sameinast um löngu tímabærar framkvæmdir. Á höfuðborgarsvæðinu verða stofnbrautir endurbættar og borgarlínan byggð upp á næstu 15 árum. Aftur á móti eiga notendur einkabílsins að standa undir helmingi kostnaðarins á móti ríkinu og sveitarfélögunum samkvæmt svonefndum samgöngusáttmála. Ekki er nóg með það, því að þótt uppbyggingin eigi að duga til margra áratuga er ætlunin að hún verði borguð upp á þeim 15 árum sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar. Hér um ræður innheimtu á 60 milljörðum króna af umferðinni til viðbótar við þær álögur sem fyrir eru. Á sama tíma er stefnt að því að fólk dragi sem mest úr notkun einkabílsins, taki strætó, hjóli eða gangi. Allar upplýsingar á Netinu Á vef stjórnarráðsins er að finna ítarlegar upplýsingar um samgönguáætlunina og samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hringlað með gjaldtökuhugmyndir Eins og gefur að skilja hefur mesta umræðan snúist um fjármögnun framkvæmdanna á höfuðborgarsvæðinu. Þegar fyrstu fréttir birtust 11. september sl. kom fram að leggja ætti vegtolla á umferð á stofnbrautum til að standa undir helmingi framkvæmdanna, 60 milljörðum króna. Innheimtir yrðu 200 til 600 kr. vegtollar á hverja ferð á stofnbrautum. 8
FÍB, þingmenn og fleiri aðilar gagnrýndu þessar hugmyndir harkalega. Meðal annars benti FÍB á að setja þyrfti upp myndavélar á 160 gatnamótum til að innheimta vegtolla og að stór hluti teknanna færi í kostnað. Slík gjaldtaka kæmi þar að auki harðast niður á efnaminna fólki.
Íslandsbanka varið í vegaframkvæmdirnar, sem þá gæti leitt til þess að áformuð gjaldtaka af umferðinni yrði minni en ella. Þegar öllu er á botninn hvolft eru það þó ávallt einstaklingarnir sem búa og starfa hér á landi sem standa undir öllum kostnaðinum – ýmist með beinum greiðslum fyrir afnot umferðarmannvirkja, með sköttum á farartækin, með skattgreiðslum til hins opinbera og með óbeinum skattgreiðslum þegar þeir kaupa vöru eða þjónustu. FÍB mælir með kílómetragjaldi
Jón Gunnarsson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, fullyrti að þverpólitísk samstaða hefði myndast fyrir því að taka upp veggjöld. Samgönguráðherra sagði hins vegar að fyrirkomulag gjaldtökunnar væri alls ekki ákveðið og ótímabært væri að tala um vegtolla. Umræða um gjaldtökuna hefur síðan farið í nokkra hringi í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum og stjórnvöld verið sökuð um hringlandahátt. Samgönguráðherra sagði það stefnu ríkisstjórnarinnar að fjármagna ætti nýjar samgönguframkvæmdir með gjaldtöku af þeim sem nota tilvonandi mannvirki. Útfærslan hefur hins vegar ekki verið ákveðin. Ríkisstjórnin hefur þó gefið undir fótinn um að hugsanlega verði tekjum af sölu
Ríkið hefur mestu tekjurnar af umferðinni í gegnum skatta á eldsneyti. Fyrir vikið taka rafbílar ekki þátt í kostnaðinum við vegakerfið. FÍB hefur bent á að hagkvæmasta leiðin fyrir ríkið til að hafa tekjur af öllum í umferðinni sé að taka upp kílómetragjald af bílum í staðinn fyrir eldsneytisskatta. Þá séu allir ferðamátar jafnsettir. Álestur geti farið fram á verkstæðum, við þjónustuskoðanir og árlegar skoðanir. Gjald geti verið mismunandi eftir stærð og umhverfisáhrifum farartækjanna. FÍB benti á að þessi aðferð væri tiltölulega ódýr í framkvæmd, öfugt við innheimtu vegtolla. Í sjónvarpsviðtali sagði samgönguráðherra að hugmyndin um
fá reikninginn kílómetragjald væri allrar athygli verð og yrði skoðuð. Björn Leví Gunnarsson alþingismaður mælti eindregið með slíkri gjaldtöku í blaðagrein og í umhverfisskýrslu samgönguáætlunar er bent á að kílómetragjald sé leið til gjaldtöku óháð orkugjafa. Uppbygging með gjaldtöku Samgönguráðuneytið hefur kynnt nokkur verkefni sem yrðu fjármögnuð að hluta með aðkomu einkaaðila sem fengju greitt til baka með vegtollum. • • • • • • •
•Hornafjarðarfljót •Brú yfir Ölfusá •Tvöföldun Hvalfjarðarganga •Axarvegur •Mjóafjarðargöng/Seyðisfjarðargöng •Sundabraut •Jarðgöng um Reynisfjall
Ánægjulegt að sjá áherslu á öryggisúrbætur Í samgönguáætluninni segir að öryggi í umferðinni sé leiðarljós hennar og stór hluti af áformuðum umbótum á vegakerfinu snúist um aukið öryggi. FÍB fagnar þessum áherslum, enda hefur umferðaröryggi verið eitt helsta baráttumál félagsins frá stofnun. FÍB sér um framkvæmd EuroRAP á Íslandi, sem felst í því að vegakerfið er skoðað með tilliti til öryggis- og áhættuþátta. Þannig skiptast útgjöld til vegamála næstu 15 árin Vegaþjónusta Vegagerðarinnar
97 milljarðar
Styrkir til almenningssamgangna
53 milljarðar
Viðhald vegakerfisins
170 milljarðar
Nýframkvæmdir
245 milljarðar
Þar af landsbyggð
125 milljarðar
Þar af höfuðborgarsvæðið
120 milljarðar
FÍB bendir á að setja þyrfti upp myndavélar á 160 gatnamótum til að innheimta vegtolla og að stór hluti teknanna færi í kostnað. 9
Kvartmilljarður króna af hraðasekt Á stjórnarfundi Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) í byrjun september sl. var fjallað um ný umferðarlög sem eiga að taka gildi 1. janúar 2020. Stjórnin fagnaði samþykkt frumvarpsins eftir margra ára meðgöngu. Umræðan var að mestu jákvæð en fram komu vonbrigði með niðurfellingu aukinnar hlutlægrar ábyrgðar sem var í frumvarpinu en fellt brott í meðförum Alþingis. Ákvæðið í frumvarpinu heimilaði álagningu sekta á skráðan eiganda eða umráðaaðila ökutækis vegna brota gegn ákvæðum laga um hraðakstur eða við akstur á móti rauðu ljósi, án þess að sýnt væri fram á ásetning eða gáleysi. Skilyrt var að brotið væri ekki til punkta, enda hefði atvikið verið myndað í löggæslumyndavél og ökutækið ekki notað í heimildarleysi. Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins voru með öflugan þrýsting á umhverfis- og samgöngunefnd um að taka út hlutlæga ábyrgð á eigendur bifreiða vegna hraðasekta. Samtökin sögðu m.a. að erfitt væri að innheimta sektir af þeim sem leigja bifreiðar og því myndi þurfa að velta sektunum út í verðlagið. Í frétt Viðskiptablaðsins um málið var sagt að Alþingi hefði bænheyrt bílaleigur með því að fella á brott hlutlæga ábyrgð vegna myndaðra ökubrota. Breið pólitísk sátt var um þessa breytingu á Alþingi. Stjórnvöld brjóta á jafnræði ökumanna Að mati stjórnar FÍB er niðurfelling sekta vegna hraðabrota í hraðamyndavélum brot á jafnræði íslenskra ökumanna gagnvart erlendum ökumönnum á bílaleigubílum. FÍB óskaði eftir upplýsingum frá ríkislögreglustjóra (RLS) um hraðamyndavélabrot. Beðið var m.a. um eftirfarandi gögn: • Fjöldi skráðra hraðabrota í hraðamyndavélum sem felld hafa verið niður sl. 10 ár. • Hlutfall erlendra ökumanna í niðurfelldum hraðabrotum. • Fjöldi hraðamyndavélabrota vegna ökumanna á bílaleigubílum. Erindinu var svarað greiðlega af Guðbjörgu S. Bergsdóttur verkefnastjóra rannsókna og þróunar hjá RLS. Hér á eftir má sjá gögnin með skýringum frá RLS.
Um 11.000 hraðabrot 2018 vegna bílaleigubíla Skráð hraðabrot í hraðamyndavélum voru 45.579 í fyrra (2018) og þar af voru 32.923 skráð á einstaklinga með íslenska kennitölu en 12.655 á fyrirtæki. Tölurnar fyrir 2018 voru svipaðar og árin 2017 og 2016. Brotum fjölgaði um 36% frá 2015 til 2016. Athyglisvert er að sjá að fjöldi hraðasekta var svipaður í upphafi viðmiðunartímabilsins og 2015 en dróst verulega saman árin 2011, 2012 og 2013. Fjöldi skráðra brota á hraðamyndavél 50.000 45.000 40.000 35.000 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0
2009
2010
2011
2012
2014
2015
2016
2017
2018
Frá 2016 hefur verið áberandi fjölgun brota vegna ökutækja sem skráð eru á fyrirtæki. Samkvæmt gögnum RLS er að meðaltali 81% fyrirtækjabrota vegna bílaleigubíla. Árið 2018 var 87% fyrirtækjabrota vegna bílaleigubíla eða um 11.000 hraðabrot. Sektir felldar niður í 95% mála vegna bíla í eigu fyrirtækja Tölurnar varðandi niðurfelldar sektir vegna hraðabrota í hraðamyndavélum eru sláandi. Stjórnvöld hafa látið líðast í 95% tilvika (meðaltal tíu ára) að fella sektir niður vegna hraðabrota sem skráð eru á bíla í eigu fyrirtækja. Að meðaltali yfir áratug hefur um 6% hraðabrota einstaklinga lokið án greiðslu sektar en þessi tala var komin niður í 1% í fyrra. Tölurnar fyrir 2017 og 2018 virðast benda til þess að aðeins betur hafi gengið að innheimta fyrirtækjabrot þau ár samanborið við árin á undan. Fleiri mál eru ennþá í sektarmeðferð. Skipting brota 100% 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0%
2009
2010
2011
2012
Einstaklingur
10
2013
2013
2014
Bílaleigur
2015 Fyrirtæki
2016
2017
2018
tum ferðamanna afskrifaðar á ári Samkvæmt upplýsingum frá hraðamyndavéla- og sektardeild lögreglunnar í Stykkishólmi var farið í innheimtuátak vegna erlendra ökumanna sem voru með hraðasektir. Kröfubréf hafa verið send á þá ökumenn sem voru með sektarkröfu yfir 50.000 krónum og náðst hefur að innheimta yfir 45% af þeim kröfum. Lögreglan á Vesturlandi telur að stórbæta megi innheimtuhlutfallið og tekjurnar ef embættið fengi heimild frá stjórnvöldum fyrir t.d. einu stöðugildi í viðbót til sektardeildarinnar. Eðlilegast að innheimta hraðasektir strax Líkt og fram kemur eiga bílaleigur að meðaltali um 81% brota sem skráð eru á fyrirtæki en þessi tala var komin í 87% árið 2018. Tölurnar um niðurfelldar kröfur sýna mikla mismunun á milli ökumanna með skráð lögheimili á Íslandi samanborið við erlenda ríkisborgara á bílaleigubílum. Lögreglan hefur Lengi kvartað yfir stöðu þessara mála og farið fram á frekari mannafla og lagabreytingar til að ná betri heimtum. Mál afgreidd án sektar 100% 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0%
innheimtuferli vegna hraðasekta sem ekki skila sér. Þær kröfur færu í sambærilegan farveg og innheimtur vegna ógreiddra sekta og veggjalda á milli landa í Evrópu. 250 milljónir króna af hraðasektum ferðamanna afskrifaðar á ári Í frétt á Vísis 9. nóvember 2017 kom fram að fjórðungi hraðamyndavélabrota væri lokið án greiðslu. Í gögnum fyrir 2018 má sjá að 25% hraðabrota hafa verið afgreidd án sektar, flest vegna bílaleigubíla. Í fréttinni fyrir tveimur árum var haft eftir Ólafi Guðmundssyni yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Vesturlandi að varlega áætlað skulduðu ferðamenn 160 milljónir króna í sektir. Þann 1. maí 2018 hækkuðu sektir vegna umferðarlagabrota umtalsvert. Minnsta hækkun hraðasekta var 50%. Lægsta sekt fyrir þann sem ók á vegi með hámarkshraða 90 km/klst var 10.000 krónur en fór í 15.000 krónur. Næsta sekt þar fyrir ofan var 30.000 krónur en fór í 50.000 krónur. Miðað við áætlun lögreglunnar 2017 má gera ráð fyrir að afskriftir vegna ógreiddra hraðakstursskulda ferðamanna í ár verði a.m.k. 250 milljónir króna. Þrátt fyrir að ríkissjóður tapi kvartmilljörðum króna í sektargjöld vafðist það ekki fyrir Alþingi að fella út hlutlæga ábyrgð á ,,minni“ hraðabrotum í nýju umferðarlögunum. Nánari tölfræðigögn á næstu síðu
2009
2010
2011
2012
2013
Einstaklingur
2014
2015
2016
2017
2018
Fyrirtæki
Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Samgöngustofa og Vegagerðin eru í samstarfi um uppsetningu og rekstur hraðamyndavéla. Myndatakan er stafræn og eru upplýsingar um hraðabrot sendar samstundis til lögreglunnar. Rafrænu sektarboðin fara fljótlega, oftast daginn eftir, til skráðs umráðaaðila ökutækis. Sektargerðir vegna hraðabrota eiga hafa forvarnargildi en það fer fyrir lítið gagnvart stærstum hluta erlendra ökumanna á bílaleigubílum. Eðlilegt væri að hafa hlutlæga ábyrgð á þessum sektum til að draga úr afskriftum og tryggja forvarnir og jafnræði ökumanna. Það er ekkert tæknilegt í veginum að senda sektarboð vegna hraðabrota strax til skráðs umráðaaðila ökutækis. Hjá bílaleigum er hægt að tengja kröfuna beint inn á leigusamning þess sem er með ökutækið á leigu. Við uppgjör samnings er leigutaki rukkaður um hraðamyndavélabrotið. Bílaleigur taka umsýslugjald af viðskiptavinum vegna innheimtu sekta þannig að leigurnar ættu ekki að hafa af þessu kostnað. Það þyrfti að búa til kæruleið og 11
Brot á hraðamyndavélar 2009-2018: Fjöldi hraðakstursbrota á hraðamyndavélar hefur aukist frá árinu 2009. Brotin voru um 30 þúsund árið 2009, fór fækkandi fram til 2013 (þegar brotin voru um 16 þúsund) en hefur fjölgað síðan þá og voru yfir 40 þúsund árin 2016-2018. Fjöldi hraðamyndavélabrota 2009-2018: 2009
Of hraður akstur
2018
Meðaltal
31.080 30.137 16.757 22.418 15.625 28.124 33.677 45.785 42.716 45.579
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
31.190
Ferill brota á hraðamyndavélar 2009-2018: Hér má sjá feril hraðakstursbrota á hraðamyndavélar 2009-2018. Að meðaltali var 75% sekta á hraðamyndavélar greiddar, en mál afgreitt án sektar í 23% brotanna. Að meðaltali er um 80% hraðamyndavélabrota skráð á einstaklinga og 19% á fyrirtæki. Þegar fyrirtæki eru skoðuð nánar má sjá að í um 80% tilvika var brot skráð á bílaleigu (hlutfallið hærra árin 2015-2018 en 20092014). Ferill brotanna, hlutfall: Til afgreiðslu/ í sektarmeðferð Sekt greidd/sektargerð samþ. Ákærumeðferð/dómsáritun Mál afgreitt án sektar Samtals
2009
0% 86% 2% 12% 100%
2010
0% 86% 2% 12% 100%
2011
0% 81% 1% 18% 100%
Fjöldi brota eftir því hver er skráður fyrir brotinu: Einstaklingur Bílaleigur Fyrirtæki Óþekkt Samtals
2009
2010
2011
2012
0% 79% 2% 19% 100%
2013
0% 77% 1% 22% 100%
0% 75% 1% 24% 100%
0% 72% 1% 27% 100%
0% 60% 0% 40% 100%
1% 66% 0% 32% 100%
2018
4% 70% 0% 25% 100%
Meðaltal
2009
91% 9% 100%
2010
91% 9% 100%
2011
86% 14% 100%
Hlutfall brota skráð á bílaleigur, af öllum fyrirtækjum* Hlutfall skráð á bílaleigur
2015
2016
2017
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
Meðaltal
2014
2015
2016
2017
28.350 27.437 14.431 18.988 12.779 22.178 25.850 30.951 32.827 32.923 2.171 2.047 1.733 2.744 2.271 4.722 6.590 12.889 8.341 11.071 2.730 2.699 2.324 3.428 2.841 5.940 7.827 14.829 9.893 12.655 1 2 2 5 6 2 5 5 31.080 30.137 16.757 22.418 15.625 28.124 33.677 45.785 42.716 45.579
Hlutfallsleg skipting brota eftir því hver er skráður fyrir brotinu: Einstaklingur Fyrirtæki Samtals
2014
2009
80%
2010
76%
2011
75%
2012
24.671 5.458 6.517 4 31.190
85% 15% 100%
82% 18% 100%
79% 21% 100%
77% 23% 100%
68% 32% 100%
77% 23% 100%
2018
72% 28% 100%
Meðaltal
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
Meðaltal
80%
2013
1% 75% 1% 23% 100%
80%
79%
84%
87%
84%
87%
81% 19% 100%
81%
*Tekið var út hvert hlutfall brota á bílaleigufyrirtæki af öllum fyrirtækjum var, og hér má sjá prósentuhlutfallið (mögulega er hlutfallið aðeins hærra, en skekkjan ætti ekki að vera meira en 2%)
Ferill brota á hraðamyndavélar, einstaklingar og fyrirtæki
Hér fyrir neðan má sjá hver var ferill hraðakstursbrota á hraðam.v. eftir því hvort brot var skráð á einstakling eða fyrirtæki. Eins og sjá má var að meðaltali 95% brota sem skráð voru á fyrirtæki afgreidd án sektar. Hlutfallið var hins vegar aðeins 6% hjá einstaklingum. Um 95% brota einstaklinga árið 2018 voru afgreidd með því að sekt var greidd. Ferill brota - fyrirtæki skráð fyrir broti: Til afgreiðslu/ í sektarmeðferð Sekt greidd/sektargerð samþ. Ákærumeðferð/dómsáritun Mál afgreitt án sektar Samtals
2009
2010
Ferill brota - einstaklingur skráður fyrir broti: Til afgreiðslu/ í sektarmeðferð Sekt greidd/sektargerð samþ. Ákærumeðferð/dómsáritun Mál afgreitt án sektar Samtals Mál afgreitt án sektar: Einstaklingur Fyrirtæki
12
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
Meðaltal
0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 1,7% 6,8% 4,7% 6,0% 4,9% 1,8% 3,7% 4,4% 4,8% 4,3% 5,9% 4,4% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 95,3% 94,0% 95,1% 98,2% 96,3% 95,6% 95,2% 95,7% 92,5% 88,8% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100%
1% 4% 0% 95% 100%
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
Meðaltal
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
Meðaltal
0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,0% 0,7% 3,5% 93,8% 94,1% 93,1% 92,6% 93,1% 93,8% 92,1% 86,9% 84,7% 95,2% 2,3% 2,0% 1,5% 2,1% 1,6% 1,2% 1,0% 0,5% 0,5% 0,4% 3,9% 3,9% 5,5% 5,3% 5,3% 5,0% 6,9% 12,6% 14,1% 1,0% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100%
4% 95%
4% 94%
5% 95%
5% 98%
5% 96%
5% 96%
7% 95%
13% 96%
14% 92%
1% 89%
0% 92% 1% 6% 100%
6% 95%
bauhaus.is
Vertu undirbúinn fyrir veturinn Mikið úrval af vetrarvörum
Snjóskófla
Breidd 40 cm. Úr kröftugu gæðaplasti með tréskafti. Ýmsar gerðir til.
3.495.-
Verð frá
Rafgeymir í bíl
12 V. 70 amp...............12.595,12 V. 90 amp...............14.995,-
7.995.-
Verð frá
Bensínsnjóblásari
Snowline 620 E II með rafræsingu. 5,98 HK mótor. Með 5 framgírum og 2 bakkgírum.Vinnubreidd 62 cm. Vinnuhæð 50 cm. Hám. kastlengd er 10-15 m. Hentar vel fyrir stærri verkefni og fyrirtæki. Væntanlegur í byrjun nóvember.
Snjóskafa
199.995.5,98 HK
Snjóskafa og bursti með snúanlegum haus.
2.195.-
Að eigin vali 3 fyrir 2
3 STK.
990.-
Bensínsnjóblásari
Kjarakaup
Snowline 55 R II bensínvél með möguleika á rafstarti, 4,5 HK mótor. Vinnubreidd 55 cm og auðvelt að stilla útkast. Samanbrjótanleg fyrir geymslu. Hentar vel fyrir minni verkefni og einstaklinga
59.995.5,98 HK 5,98 HK
80.000.-
EXO 97 De-Icer. Stykkjaverð. ..................................... 495.Lásaolía 50 ml. Frostlögur. Stykkjaverð. ..................................... 495.BAUHAUS rúðuhreinsir, 500 ml. Stykkjaverð ...................................... 495.Skafa. Svört. Stykkjaverð ...................................... 495.-
Rúðuvökvi. Þolir allt að -21 gráðu. Stykkjaverð ... 495.Sótthreinsigel. Stykkjaverð ...................................... 495.Sílíkon med pensli, 100 ml. Stykkjaverð. ..................................... 495.Svampur. Stykkjaverð. ..................................... 495.-
MIKIÐ ÚRVAL, GÆÐI OG LÁGT VERÐ, ALLTAF! OPNUNARTÍMAR: VIRKA DAGA 8-19 / UM HELGAR 10-18
BAUHAUS REYKJAVÍK – Lambhagavegur 2-4 – 113 Reykjavík – 515-0800 – upplysingar@bauhaus.is – www.bauhaus.is
13
Samkomulagið feli í sér sameiginleg Sáttmáli ríkisins og sex sveitarfélaga um uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á næstu 15 árum var undirritaður í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu 26. september. Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherrar, borgarstjóri og bæjarstjórar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu sáttmálann. Sáttmálinn gerir ráð fyrir 120 milljarða framkvæmdum í samgöngumannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu. Meðal framkvæmda er að Sundabraut verður lögð og hlutar Miklubrautar og Sæbrautar verða settir í stokk. Þá verður ráðist í að innleiða stafræna umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu svo að eitthvað sé nefnt. Í tilefni undirritunar sáttmálans sagði í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu að samkomulagið feli
14
í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið sé að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga. Markmið samkomulagsins er fjórþætt: • Greiðari samgöngu og fjölbreyttir ferðamátar.
tryggð við endurskoðun gjalda af ökutækjum og umferð í tengslum við orkuskipti eða með beinum framlögum við sölu á eignum ríkisins. Á tímabilinu verða 52,2 milljarðar lagðir í stofnvegi, 49,6 milljarðar í innviði borgarlínu og almenningssamgöngur, 8,2 milljarðar í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng og 7,2 milljarðar í bætta umferðarstýringu og sértækar öryggisaðgerðir.
50 milljarðar í borgarlínu
Félag í eigu ríkis og sveitarfélaga verður stofnað um framkvæmdirnar og fjármögnun þeirra. Ríkið skuldbindur sig til að leggja uppbyggingarland að Keldum inn í félagið og mun ábati af þróun þess renna til uppbyggingar samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Af þessum 120 milljörðum mun ríkið leggja til 45 milljarða og sveitarfélög 15 milljarða. Gert er ráð fyrir að sérstök fjármögnun standi straum af 60 milljörðum krónum. Hún verður
Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að félagið, sem stofnað verður um framkvæmdirnar, geti innheimt svonefnd flýti- og umferðargjöld sem yrðu liður í breyttri gjaldtöku
• Kolefnislaust samfélag. • Aukið umferðaröryggi. • Samvinna og skilvirkar framkvæmdir.
ga framtíðarsýn og heildarhugsun ríkisins. Enn á eftir að útfæra tillögur í þessum efnum. Önnur fjármögnun félagsins gæti verið í formi sérstakra ríkisframlaga eða hlutdeildar í öðrum tekjustofnum tengdum samgöngum. Fram kom að fara á í framkvæmdir í samgöngumálum á næstu 15 árum sem annars tæki 50 ár að klára á núverandi framkvæmdahraða, að því er segir í tilkynningunni. Fram kemur að sérstök fjármögnunin upp á 60 milljarða verði tryggð með endurskoðun gjalda af ökutækjum og umferð í tengslum við orkuskipti eða með beinum framlögum af sölu á eignum ríkisins. Endurskoðun stendur nú yfir á tekjustofnum ríkisins vegna ökutækja og eldsneytis vegna orkuskipta. Hluti þeirrar vinnu verður að breyta
gjaldtöku með þeim hætti að í ríkari mæli verði treyst á gjöld af umferð í stað bensín- og olíugjalda. Áform eru um að taka upp sértæka gjaldtöku víðar á landinu til að fjármagna stærri samgönguframkvæmdir og rekstur jarðganga. Dæmi um þetta eru tvöföldun Hvalfjarðarganga, Sundabraut, brú yfir Ölfusá, brú yfir Hornafjarðarfljót, nýr vegur yfir Öxi ásamt láglendisvegi um Mýrdal og jarðgöng í gegnum Reynisfjall. Samgönguráðherra hefur í hyggju að þessar framkvæmdir verði fjármagnaðar með veggjöldum í einkaframkvæmd. Í nokkrum tilfellum kemur til greina að ríkið leggi til allt að helming kostnaðar.
Fram kom í máli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra að álögur eigi ekki að þurfa að breytast þótt leiðir til fjármögnunar á nýju samgöngukerfi breytist. Málið snúist einnig um forgangsröðun í ríkisfjármálum. Hann sagði að markmiðið með þessu öllu væri að finna leiðir til þess að það þurfi ekki að gerast enda erum við með fjármagn til framkvæmda. Til dæmis jafngildi eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka því að fara í þessa stórkostlegu uppbyggingu til fimmtán ára á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Málið snúist líka um það að gera upp á milli valkosta og forgangsraða ríkisfjármálum.
Helstu framkvæmdir samkvæmt samkomulaginu Þær framkvæmdir eru feitletraðar sem verður flýtt miðið við tillögu viðræðuhóps um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu frá nóvember 2018 til 2033. Framkvæmdir
Upphaf
Lok
Vesturlandsvegur: Skarhólabraut – Hafravatnsvegur
2019
2020
Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur – Krísuvíkurvegur
2019
2020
Suðurlandsvegur: Bæjarháls – Vesturlandsvegur
2021
2021
Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg
2021
2021
Arnarnesvegur: Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut
2021
2021
Sæbrautarstokkur: Vesturlandsvegur – Holtavegur
2021
2022
Borgarlína: Ártún – Hlemmur
2021
2023
Borgarlína: Hamraborg – Hlemmur
2021
2023
Miklabrautarstokkur: Snorrabraut – Rauðarárstígur
2022
2023
Borgarlína: Hamraborg – Lindir
2023
2024
Borgarlína: Mjódd – BSÍ
2024
2026
Miklubrautarstokkur: Rauðarárstígur – Kringlumýrarbraut
2024
2026
Reykjanesbraut: Álftanesvegur – Lækjargata
2024
2028
Suðurlandsvegur: Norðlingavað – Bæjarháls
2027
2027
Borgarlína: Kringlan – Fjörður
2027
2030
Hafnarfjarðarvegur: Stokkur í Garðabæ
2028
2030
Borgarlína: Ártún – Spöng
2029
2031
Borgarlína: Ártún – Mosfellsbær
2031
2033
15
Þörf á samgöngubótum um land allt Gjaldtaka verður í tiltekinn tíma fyrir akstur um Sundabraut, á nýrri brú yfir Ölfusfljót, um tvöföld Hvalfjarðargöng, um jarðgöng um Reynisfjall og Axarveg. Um verður að ræða svokölluð samvinnuverkefni einkaaðila og ríkis þar sem gjaldtaka verður í af-markaðan tíma en síðan verður eignarhald innviða afhent ríkinu í lok samningstíma. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á fundi ráðuneytisins sem haldinn var í Norræna húsinu 17. október þar sem fór fram kynning á uppfærðri og endurskoðaðri samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034. Endurskoðun samgönguáætlunarinnar leiddi það af sér að fallið hefur verið frá gjaldtöku á stofnleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu. „Það er þörf á samgöngubótum um land allt og það er bjargföst trú mín að með betri og fjölbreyttari samgöngum megi byggja sterkara samfélag. Aukið öryggi á vegum skiptir höfuðmáli en sömuleiðis framkvæmdir til að stytta leið fólks milli byggðarlaga sem aftur eflir atvinnusvæðin. Við þurfum að hugsa út fyrir boxið hvað varðar fjármögnun,“ sagði ráðherra. Að öðrum kosti verðum við mjög lengi að þessu; við verðum 50 ár að klára verkefni sem við ætlum að klára á næstu 15 árum,“ sagði Sigurður Ingi á kynningunni í morgun. Drög að samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með 31. október 2019. Í samgönguáætluninni er sérstök áhersla lögð á að flýta framkvæmdum innan tímabilsins frá því sem áður var. Um er að ræða uppfærða og endurskoðaða samgönguáætlun til fimmtán ára á grunni þeirrar sem samþykkt var á Alþingi síðasta vetur. Einnig er kynnt uppfærð aðgerðaáætlun fyrir fyrsta tímabilið 2020-2024. 16
Bein framlög til samgöngumála nema alls tæpum 633 milljörðum króna á fimmtán ára tímabili samgönguáætlunar,þar af falla tæpir 560 milljarðar til vegagerðar.
• Sérstök jarðgangaáætlun er kynnt en þar er gert ráð fyrir að framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng hefjist þegar á árinu 2022. • Bein fjármögnun ríkisins í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er staðfest í samgönguáætluninni. Sáttmáli ríkis og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu felur í sér sameiginlega sýn og heildarhugsun fyrir fjölbreyttar samgöngur á svæðinu. • Unnið verður að framkvæmdum til að aðskilja akstursstefnur frá höfuðborgarsvæðinu að Borgarnesi, austur fyrir Hellu og að Leifsstöð. • Drög að fyrstu flugstefnu Íslands er kynnt með tólf lykilviðfangsefnum.
Helstu atriði í uppfærðri samgönguáætlun: • Við endurskoðun fjármálaáætlunar síðasta vor var samþykkt að auka framlög til vegagerðar umtalsvert. Þeim fjármunum er m.a. ráðstafað í aukin framlög til nýframkvæmda, viðhalds vega og þjónustu. Framlögin hækka um 4 milljarða á ári á tímabilinu 2020-2024 frá því sem áður var. • Fjölmörgum framkvæmdum er flýtt á tímabili áætlunarinnar með sérstakri áherslu á að bæta umferðaröryggi og tengingar milli byggða. Á tímabilinu verður framkvæmdum, sem í heild eru metnar á um 214,3 milljarða króna, flýtt. Þar af eru framkvæmdir fyrir um 125,5 milljarða króna utan höfuðborgarsvæðisins og 88,8 milljarða króna í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. • Kynnt eru áform um helstu verkefni sem geta hentað vel fyrir samvinnuverkefni (PPP) ríkis og opinberra aðila en slík fjármögnun getur flýtt mörgum verkefna samgönguáætlunar.
• Drög að fyrstu heildarstefnu um almenningssamgöngur milli byggða er kynnt með sex lykilviðgangsefnum. Framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng hefjast 2022 Sérstök jarðgangaáætlun birtist nú í samgönguáætlun. Miðað er við að jafnaði sé unnið í einum göngum á landinu á hverjum tíma. Þar er gert ráð fyrir að framkvæmdum við Dýrafjarðargöng ljúki árið 2020. Þá er miðað við að flýta upphafi framkvæmda við Fjarðarheiðargöng þannig að þær hefjist árið 2022 eða talsvert fyrr en áður hefur verið ráðgert. Fjarðarheiðargöng eru sett í forgang, í samræmi við niðurstöðu verkefnishóps um jarðgangakosti á Austurlandi. Í kjölfarið hefjast framkvæmdir á göngum milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og síðan frá Mjóafirði til Norðfjarðar og þannig verði komið á hringtengingu á svæðinu. Gert er ráð fyrir því að framlög af samgönguáætlun standi undir helmingi framkvæmdakostnaðar jarðganga. Þá er stefnt að því að gjaldtaka af umferð í jarðgöngum á Íslandi standi undir hinum helmingi kostnaðar við framkvæmdir en einnig að sú innheimta muni fjármagna rekstur og viðhald ganganna að framkvæmdum loknum.
Procar hjá héraðssaksóknara Rannsókn héraðssaksóknara í máli bílaleigunnar Procar miðar vel en embættið fékk málið fyrst á borð til sín í byrjun sumars vegna umfangs. Áður hafði Samgöngustofa komist að þeirri niðurstöðu að svipta ekki bílaleiguna Procar starfsleyfi. Tillögur fyrirtækisins að úrbótum voru taldar fullnægjandi. Allt frá því að málið komst upp hefur viðbragðsleysi vegna þess verið gagnrýnt en það heyrir undir Samgöngustofu Aðdragandi málsins var að í upphafi ársins upplýsti fréttaskýringaþátturinn Kveikur um umfangsmikið svindl bílaleigunnar Procar. Gögn sýndu að átt hefði verið við kílómetrastöðu bíla áður en þeir voru seldir á að minnsta kosti fimm ára tímabili. Procar gekkst við brotunum og hét því að bjóða þeim bætur sem voru blekktir.
Í byrjun júlí hafði Procar boðið bætur þeim viðskiptavinum sem keyptu bíla þar sem búið var að eiga við kílómetrastöðuna. Um helmingur þeirra 130 viðskiptavina sem um ræðir hefur þegið bæturnar en tilboðið átti að standa í fjórar vikur. Þær byggðust á niðurstöðu óháðs matsmanns sem var fenginn til að meta tjón af því að átt hefði verið við akstursmæla. Heimildir herma að tilboðið hljóði upp á mismuninn á markaðsvirði bílsins miðað við rétta og upplogna kílómetrastöðu, það er dulið verðfall, auk 40% álags.
Í viðtali við fjölmiðla seinni parts sumars sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, að tilboð bílaleigunnar Procar um bætur vegna svika þeirra vera langt undir því sem eðlilegt gæti talist. Runólfur þekkir þó í það minnsta tvö dæmi þess að fólk hyggist taka tilboði Procar, „með óbragð í munninum, ef svo má segja“. Aðilum frá Vestmannaeyjum buðust 60 þúsund krónur sem er varla upp í nös á ketti. Hitt til-boðið er öllu myndarlegra, enda var svindlið þar svæsnara, en það hljóðar upp á 330 þúsund krónur.
Gæði - Öryggi - Þjónusta
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF BARNABÍLSTÓLUM Maxi-Cosi Pebble Plus
Maxi-Cosi PearlPro i-Size
Britax Dualfix M i-Size
17
Faxafeni 8 | 108 Reykjavík | fifa.is
Afnám reglugerðar færir okkur aftur um 30 ár Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) og Bílgreinasambandið (BGS) gagnrýna áform atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um að fella niður skilyrði um leyfisveitingar fyrir sölu notaðra ökutækja, þ.m.t. kröfu um námskeið og próf fyrir bílasala í sameiginlegri umsögn.
að hafa rangt við í þessum viðskiptum, fólk og almenningur átti erfitt með að leita réttar síns. Síðasta orðið hefur ekki verið sagt í þessum efnum en sameiginlegu erindi frá FÍB og BGS hefur verið komið áleiðis inn í svokallaða
Tillagan er hluti af aðgerðaáætlun ráðuneytisins um einföldun regluverks í stjórn-sýslunni en FÍB og BGS telja þetta afar misráðið. Verði þessir skilmálar afnumdir komi ekkert í veg fyrir að svikahrappar hasli sér völl á þessum markaði og fari sínu fram, líkt og raunin hafi verið í nágrannalöndunum. Velta í sölu notaðra ökutækja hér á landi ár hvert er á bilinu 60-80 milljarðar. „Ástandið á þessum vettvangi, áður en núverandi reglugerð var sett, var eins og í villta vestrinu. Það ástand viljum við ekki sjá aftur. Þá var mikill þrýstingur frá okkur sem neytendum og svo hins vegar frá bílgreininni sjálfri að setja reglugerð yfir þessa starfsemi, auka fagmennsku og bæta neytendavernd. Þá var oft verið
18
samráðsgátt og við fylgjumst grannt með framgangi,“ segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. FÍB og BGS telja afar misráðið að ætla að fella niður þetta skilyrði. Það hefur skapað aðhald að sölufyrirtækjunum sem hefur síðan stuðlað að því að hér ríkir
almennt traust í viðskiptum með notuð ökutæki. Mikil samkeppni ríkir á þessum markaði og seljendur notaðra bíla hafa ekki kvartað undan því að þurfa að afla leyfis til starfseminnar eða sitja námskeið í þeim efnum. Þegar lög voru fyrst sett árið 1994 um leyfisveitingar fyrir sölu notaðra ökutækja var markmið þeirra að stuðla að neytendavernd og „leysa sem fyrst þau vandamál og erfiðleika sem tengst hafa bifreiðasölu í gegnum árin. Mestu máli skiptir að gera auknar kröfur til þeirra sem vilja stunda slík viðskipti,“ sagði í athugasemdum við lagafrumvarpið. Þessar röksemdir eiga jafnt við nú og fyrir 25 árum. Þess má geta að á Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu er mikil umræða um hvernig koma megi böndum á óviðunandi ástand í viðskiptum með ökutæki. Fagaðilar í Evrópu hafa horft sérstaklega á „íslenska módelið“ sem ákjósanlega leið til að bæta viðskiptasiðferði og neytendavernd í bílaviðskiptum. Með tilliti til þessa eru áform ráðuneytisins óskiljanleg með öllu.
Loftmynd af bílasölum í Hálsahverfií Reykjavík
Aukin þjónusta hjá FÍB um land allt! Þjónustunet FÍB Aðstoðar á landinu hefur stækkað og þést. Nú njóta FÍB félagar aðstoðar í samræmi við skilmála á þeim svæðum sem sjá má á Íslandskortinu hér undir. Innifalið í FÍB aðstoð er eftirfarandi þjónusta: Aðgangur að FÍB Aðstoð vegþjónustu 365 daga ársins. Svarað er í neyðarsíma FÍB Aðstoðar allan sólarhringinn í síma 5 112 112. Ef bíllinn bilar á ferðalagi eru upplýsingar um þjónustu veittar óháð tíma eða dagsetningu. Rafmagnsaðstoð: Ef bíllinn verður straumlaus, t.d. á köldum vetrarmorgni er veitt aðstoð við að koma bílnum í gang með starttæki eða startkapli. Eldsneytisaðstoð: Ef bíll félagsmanns er bensín- eða dísilolíulaus, kemur þjónustubíll með eldsneyti og sem nægir til að komast á næstu bensínstöð. Félagsmaður greiðir aðeins fyrir eldsneytið sem fer á bílinn.
Dekkjaskipti: Ef dekk springur eða er loftlaust og hjálpar er þörf þá aðstoðar FÍB Aðstoð félagsmenn á vettvangi. Dráttarbíll: Félagsmaður á tilkall til eins dráttarbíls frítt á aðildarári í dagvinnu innan þjónustusvæðis. Þjónustan er miðuð við flutning á bilaðri fólksbifreið t.d. á verkstæði eða af hættulegum vettvangi. Ef þjónusta dráttarbíls er veitt utan dagvinnu þá greiðir félagsmaður aðeins yfirvinnuálag. Aukið öryggi fyrir rafbílaeigendur Ný þjónusta við rafbílaeigendur í FÍB sem dregur úr drægnikvíða. Ef rafbíllinn verður orkulaus flytur FÍB Aðstoð bíllinn á næstu hleðslustöð eða að heimili félagsmanns, eftir því hvort er nær. Endurgjaldslaus flutningur miðast við dagvinnu innan þjónustusvæðis FÍB Aðstoðar. Ef rafbíll er fluttur utan dagvinnu þá greiðir félagsmaður yfirvinnuálag. FÍB félagar geta notið rafbílaaðstoðarinnar allt að tvisvar sinnum á félagsári, í samræmi við skilmála og skilyrði FÍB Aðstoðar.
Prentun greiðsluseðla hætt Með samfélags- og umhverfislega ábyrgð að leiðarljósi hefur FÍB ákveðið að hætta að senda út prentaða greiðsluseðla frá og með næstu áramótum. Krafa vegna félagsgjalds mun hér eftir einungis birtast í heimabanka félagsmanns. Afnám greiðsluseðla dregur úr sóun og er umhverfislega jákvætt. Kostnaður sparast sem nýtist til eflingar þjónustu. Að sjálfsögðu geta félagsmenn sem þess óska fengið greiðsluseðil í pósti. Þeim er vinsamlegast bent á að hafa samband í síma 414-9999 eða senda póst á netfangið fib@fib.is. Með bestu kveðjum, starfsfólk FÍB.
19 ásamt Hjörtur Gunnar Jóhannesson frá FÍB Aðstoð Valdimari Haraldssyni hjá Vöku
Veturinn nálgast
Bestu negldu og ónegldu vetrarhjólbarðarnir 2018
VETRARDEKKJA VETRAR DEKKJA
könnun fíb 2019 Á þessum tíma árs lítur dagsins ljós hin árlega vetrardekkjakönnun enda er vetur konungur handan hornsins. Í þessari könnun kemur þýski dekkjaframleiðandinn Continental sér fyrir í efstu sætum, bæði hvað ónegldu og negldu dekkin áhrærir. Eins og endranær er vetrardekkjakönnunin enn og aftur staðfesting á því að bíleigendur verða að velja dekk í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Hjólbarðakannanir FÍB-blaðsins Eins og endranær eru hjólbarðakannanir FÍB-blaðsins unnar af norska systurfélaginu NAF. Norska félagið kostar gerð þeirra með nokkrum fjölmiðlum í Noregi, Svíþjóð og Rússlandi. Vetrardekkjakönnunin nær sérstaklega til dekkja sem eru gerð til að mæta vetraraðstæðum á norðlægum slóðum. Prófanir á ís og snjó fóru fram á prófunarbrautinni utan við Arvidsjaurí Norður-Svíþjóð í lok febrúar 2019. Viðeigandi öryggisbúnaður s.s. ABS og skikvörn var í sambandi. Allar mælingar á þurru og blautu malbiki voru framkvæmdar í prófunarbrautinni í Gislaved í Svíþjóð í lok apríl. Mælingar á edslneytiseyðslu og uppflotsrannsóknir fóru fram á prófunarbraut utan við Hannover í Þýskalandi. Af kostgæfni eru dekkin sem prófa á keypt í almennum hjólbarðaverslunum til að koma í veg fyrir að dekk sem hugsanlega hafa verið aðlöguð að prófunum taki þátt í könnuninni. Þegar nýjar dekkjagerðir eru ekki enn komnar í verslanir þegar könnunin hefst er þeirra aflað hjá framleiðendum og síðar bornar saman við sömu gerðir úr almennri verslun og ætluð almennum viðskiptavinum.
20
21
Vetrardekkjakönnun 2019 Ónegld dekk verða sífellt vinsælli af ýmsum ástæðum. Þau verða sífellt betri og slíta vegum mun minna. Hafa verður þó í huga að á Íslandi geta aðstæður verið misjafnar eftir svæðum. Sumir vegir geta verið snævi þaktir og svell liggur yfir þeim lunga úr vetri. Á sama tíma geta vegir sunnanlands oft verið meira og minna greiðfærir. Dekkjakönnunin leggur áherslu á að að bíleigendur einblíni ekki um of á heildarstigagjöfina, alltaf verður að miðað við aðstæður sem ökumaðurinn keyrir í á hverjum tíma.
Könnunin á negldu dekkjunum fór fram í Svíþjóð og voru dekkin sem tóku þátt frá Bridgestone, Continental, Goodyear, Hankook, Michelin, Nokian og Sailun auk samanburðardekks. Pirelli, sem var með í fyrra, tók ekki þátt að þessu sinni því að dekkið frá framleiðandanum var ekki í réttri vídd þegar könnunin var gerð. Continental, sem skoraði hæst í könnuninni, var með nýja hönnun. Nýja aðferðin heitir FlexStud og slítur vegum allt að 20% minna. Í ljós kom einnig að grip dekksins á ís er mjög gott. Í hálku og snjó virka nagladekk best en það þarf ekki gilda fyrir akstur á blautu eða þurru malbiki.
Í ónegldu dekkjunum kom Continemtal VikingContact 7 best út. Nokian og Goodyear komu í næstu sætum.. Önnur dekk sem tóku þátt í könnunni voru Nordmann, Sava, Yokomaha og Chinese Leao auk samanburðardekksins. Bridgestone og Michelin tóku ekki þátt í könnunni að þessu sinni því að framleiðendur þessir eru með dekk sem brátt víkja fyrir nýrri framleiðslu. Könnunin undirstrikar að framleiðendur leggja áherslu á, kannski mun meiri en áður, að þróa hágæða vetrardekk fyrir norrænar aðstæður. Það sem skiptir máli er að bíleigendur gefi sér tíma og skoði vel hvaða dekk eru í boði og geta þannig sparað sér fé Góðar upplýsingar er að finna inni á heimasíðum þeirra. Einnig er félagsmönnum í FÍB bent á að nýta sér afslætti sem félagið hefur samið um við marga hjólbarðasala.
Hemlun Þegar kemur að jafn mikilvægum þætti eru hemlunarvegalengdir mældar á snjó, ís, votu og þurru malbiki. Hvert hemlunarpróf er margendurtekið (15-20 sinnum) yfir nokkurra daga tímabil við mismunandi hitastig. Á ís er hemlað af 20 km hraða niður í 5. Í snjó er aftur á móti hemlað frá 35 km niður í 5. Þegar kemur að votu og þurru malbiki er hemlað af 80 km hraða niður í 5. Hemlaprófanirnar á snjó og ís fara fram bæði innan- og utanhúss við mismunandi hita- og rakastig sem þar má stjórna og með því er hægt að lágmarka hvaða áhrif verða á allar niðurstöður. Hröðun Dekkjagrip á ís og í snjó er mælt með því að ná upp sem mestri mögulegri hröðun bílsins. Tími hröðunarinnar á tilteknu hraðabili er síðan mældur. Á ís er hraðabilið 5-20 km/klst. Þessi hraðakönnum er margendurtekin yfir nokkurra daga tímabil, bæði innanog utanhúss. 22
Rásfesta Rásfestan er metin með akstri á snjó eða ísilögðu yfirborði með skröpuðum rásum. Ákveðinn fjöldi ökumanna metur hver í sínu lagi rásfestuna í kringumstæðum sem upp koma við slíkar aðstæður og er einkunnin meðaltal af mati þeirra. Vert er að geta þess að þetta er einnig blindpróf. Ökumenn eru ekki meðvitaðir um hvaða dekkjategund er undir bifreiðinni hverju sinni. Aksturseiginleikar Aksturseiginleikar og veggrip í akstri er metið með tímatökum á brautum sem eru ýmist ísilagðar, snjóþaktar eða auðar og votar. Margir ökumenn aka bílnum til skiptis og markmiðið er að ná sem stystum brautartíma þannig að ökulagið er hranalegt og samsett úr hröðun, hemlun og hröðum akstri í beygjum. Lokaeinkunnir eru reiknaðar út frá meðaltali brautartíma allra ökumanna.
Aksturstilfinning Til viðbótar við brautartíma gefa ökumennir hverri dekkjategund persónulega einkunn fyrir það hversu stöðugt og öruggt þeim fannst viðkomandi dekk í akstri. Því er afar mikilvægt hvernig þeim fannst dekkin haga sér við mismunandi akstursaðstæður. Má þar nefna hvernig og hversu fljótt það missti veggrip í beygju og hve erfitt eða létt var að ná tökum tökum á akstrinum eftir að slíkt hefur gerst. Ökumenn verða ætíð að vera viðbúnir því að þannig aðstæður komi upp í venjulegum akstri svo að þessi vitneskja getur skipt verulegu máli. Veggnýr Ökumennirnir sjálfir meta og mæla veggný hjólbarðanna eftir akstur á grófu yfirborði vegarins. Á sama tíma er framkvæmd hljóðmæling með mælitækjum.
www.n1.is
facebook.com/enneinn
Öruggari á Michelin dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á n1.is
Michelin X-ICE Hljóðlát, naglalaus vetrardekk Ný APS gúmmíblanda tryggir gott grip í kulda Frábærir aksturseiginleikar
Michelin X-ICE NORTH 4
Michelin Alpin 6
Besta hemlun á ís, hvort sem dekkin eru ný eða ekin 10.000 km Betri aksturseiginleikar m.v. helstu samkeppnisaðila Hámarks grip með sérhönnuðu mynstri fyrir hverja stærð Einstök ending
Nýr mynsturskurður sem opnast eftir því sem dekkið slitnar Heldur eiginleikum sínum út líftíman Lagskipt gúmmíblanda sem veitir hámarks grip
Notaðu N1 kortið
Öruggt frá fyrsta til síðasta kílómetra
Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu
440 1318 440 1322 440 1326 440 1320
Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi Réttarhvammi Akureyri
440 1378 440 1374 440 1372 440 1394 440 1433
Opið mán – fös laugardaga
kl. 08-18 kl. 09-13
Alltaf til staðar
23
Nagladekk 1
2
Continental IceContact 3 FlexStud
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk:
192 T(190 km/h) 98 Vika 2, 2019 Þýskaland BJB-Mótorstilling 39.990 kr.
88
STIG
IceContact kemur með stærstu breytingarnar á vetrardekkjamarkaðinn á þessu ári. Dekkið fékk hæstu einkunn í prófunum og fór því í fyrsta sæti. Gúmmíblandan í dekkinu er mjúk eins og um óneglt dekk væri að ræða. Það er jafnvel mýkra en ónegldu Nokian–dekkin. Í grunninn eru þetta nagladekk sem hegða sér eins og um naglalaus dekk séu að ræða og skilar það dekkjunum bestu einkunn bæði í snjó og hálku. Með nýjum gúmmí nöglum með stálpinna frá Continental hefur tekist að draga umtalsvert úr veggný. Hins vegar er dekkið ekki eins gott við akstur á auðu malbiki. Bremsuvegalengd er stutt en mýktin á dekkinu getur valdið erfiðleikum við stýringu. Þá virðist dekkið einnig slitna hratt við akstur á malbiki. Þegar öllu er á botninn hvolft hefur IceContact3 þó vinninginn og setur um leið ný viðmið þegar kemur að vetrardekkjum.
Michelin X-ICE North 4
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk:
257 T(190 km/h) 98 Vika 4, 2018 Rússland N1 - Costco 36.990 - 33.299 kr.
80
STIG
257 naglar í hverju dekki gerir XIN4 einstakt í flokki nagladekkja. Dekkið hefur tilhneigingu til að valda undirstýringu en nær að rétta sig af án vandræða. Þrátt fyrir þetta stendur XIN4 sig einna best allra dekkja í snjó og hálku. Þá hefur Michelin tekist að búa til dekk sem er jafnvígt í snjó og á þurru malbiki. Dekkið er með bestu niðurstöðu þegar litið er yfir alla þætti miðað við aðstæður og undirlag. Vel að öðru sæti komið. Kostir: Grip við vetraraðstæður, stöðugt á malbiki, hljóðlátt. Ókostir: Flot.
Kostir: Gott grip í snjó og ís, hljóðlátt. Ókostir: Mjúkt og fljótandi á auðu malbiki.
3
4
Ónegld dekk til viðmiðunar
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
0 T(190 km/h) 98 Vika 47, 2018 Þýskaland
76
STIG
Til að bera saman ónegld dekk við negld var notast við ContinentalContact7 frá Continental sem sigraði í fyrra í flokki ónegldra dekkja. Þrátt fyrir að vera naglalaust vetrardekk koma veikleikarnir helst fram við akstur á malbiki. Mjúkt munstur sem eykur á grip og stöðugleika veldur því einnig að vatn á ekki auðvelt með að komast undan dekkinu sem síðan veldur floti. Aftur á móti nær dekkið stigum sínum til baka þegar kemur að akstri í vetrarfærð. Hæfileikar dekksins koma best fram við akstur í snjó en einnig vinnur það vel í hálku þrátt fyrir að vera naglalaust. Við akstur á grófum ís kemur bersýnilega í ljós hversu megnug ný naglalaus vetrardekk eru orðin. Hljóðlát dekk með gott grip við vetraraðstæður landa þriðja sætinu skammarlaust. Kostir: Grip í snjó, grip í beygjum á grófum ís, hljóðlátt. Ókostir: Grip í bleytu, akstur á þurru malbiki, flot. 24
Nokian Hakkapeliitta 9
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
196 T(190 km/h) 98T Vika 45, 2018 Finnland MAX1 36.720kr.
75
STIG
Nokian–dekkið býður upp á góða aksturseiginleika við allar aðstæður. Gott grip í snjó og ísakstri skipar Hakkapeliitta 9 í röð með bestu dekkjum ásamt því að vera best í sínum flokki þegar kemur að svigakstri við blautar aðstæður. Á þurru malbiki koma veikleikar dekksins í ljós þar sem bremsuvegalengd er miðlungs góð og ónákvæmt í stýri. Að auki á dekkið erfitt með að ýta vatni frá sér sem veldur floti og þá þykir það heldur hávært. Á heildina litið er Hakkapeliitta 9 skemmtilegt og öruggt aksturdekk, sérstaklega við akstur í ís og snjó. Hakkapeliitta 9 situr því í þriðja sæti yfir bestu nagladekkin og því fjórða séu ónegld dekk tekin með. Kostir: Akstursánægja, vetraraðstæðum. Ókostir: Veggnýr, flot.
öryggistilfinning,
grip
í
Nagladekk 5
6
Hankook Winter i*Pike RS2
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
198 T(190 km/h) 98 Vika 30, 2018 Suður-Kórea
69
STIG
Goodyear UltraGrip IceArtic SoundComfort
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
130 T(190 km/h) 98 Vika 28, 2018 Pólland Klettur 41.300 kr.
67
STIG
Önnur kynslóð i*Pike hefur fengið uppfærslu.
Fáir naglar valda slöku gengi.
Winter i*Pike RS2 var með eina lengstu bremsuvegalengd á þurru og blautu malbiki.
Í fyrri prófunum hefur veggnýr verið í hærra lagi en það hefur batnað eftir að dekkin hafa fengið hljóðdempandi mottur að innan. Einnig eru dekkin í boði án hljóðdempandi mottu og eru þá ódýrari. Með aðeins 130 nagla til umráða á Goodyear í erfiðleikum með grip á ís og í snjó.
Á móti stóð dekkið sig best af öllum þegar flot var prófað. i*Pike fékk enn slakari einkunn en búist var við í akstri á ís en dekkið hefur stystu naglana af öllum prufudekkjunum. Hankook er nánast á pari við Nokian–dekkið þegar kemur að aksturánægju. Dekkið getur tekist á við fjölbreyttar aðstæður en örlar á yfirstýringu undir miklu álagi. Kostir: Akstursánægja, lítið flot, fjölbreytileiki. Ókostir: Veggnýr, hemlun á blautu malbiki
Bestu eiginleikar koma í ljós við hröðun og hemlun á beinum vegi en gripið versnar í kröppum beygjum og umtalsverðar líkur á undirstýringu. IceArtic stendur sig betur á malbiki. Þar sýnir það stöðugleika og stutta bremsuvegalengd jafnt í blautu sem þurru. Að auki ryður það vatni vel frá sér sem dregur úr hættunni á floti. Þegar allt er tekið saman hreppir Goodyear sjötta sæti. Kostir: Akstur í þurru, hemlun í snjó. Ókostir: Grip við svigakstur á ís og snjó, viðnám.
7
8
Bridgestone Noranza 001
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
198 T(190 km/h) 98 Vika 16, 2018 Rússland Betra Grip 41.252 - 51.568 kr.
62
STIG
Noranza 001 hefur verið að vinna á frá 2016 en með aukinni samkeppni frá öðrum framleiðendum færist dekkið aftar í röðina. Dekkið hefur gott grip á ís en skilar verstu niðurstöðu þegar kemur að gripi í snjó. Þegar mest á reyndi í akstri og dekkið var við það að missa grip skiptist það þá á að fara í undir- og yfirstýringu. Á malbiki sýndi dekkið gott viðbragð og stöðugleika, örlaði á yfirstýringu. Niðurstöður prófana skilar Bridgestone aðeins sjöunda sæti þetta árið. Kostir: Viðnám við yfirborð og eyðsla eldsneytis, eiginleikar við þurrar aðstæður. Ókostir: Hemlun í þurru, flot.
Sailun IceBlazer WST3
Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
139 T(190 km/h) 98 Vika 31, 2017 Kína
32
STIG
Sjaldan hefur dekk fengið jafn slæma einkunn eins og þetta ódýra dekk frá Kína. Kínverska merkið Sailun olli strax vonbrigðum áður en prófun hófst. Eftir rólegan 50 kílómetra akstur höfðu naglar færst til og jafnvel dottið úr dekkinu. Gúmmíblandan í dekkinu er hörð eins og sumardekk og skortir alla festu við akstur í snjó og þá er ekki bara verið að miða við nagladekk. Það væri ekki einu sinni hægt að kalla dekkið heilsársdekk. Í grunninn er í raun blekking að tala um þetta sem vetrardekk. Þrátt fyrir harða gúmmíblönduna er dekkið ekkert betra á þurru malbiki. Þegar ekið er nálægt gripmörkum verður dekkið óútreiknanlegt og erfitt viðureignar. Dekkið fer án efa í síðasta sæti. Kostir: Engir. Ókostir: Slakt grip við vetraraðstæður, aksturseiginleikar í þurru. 25
Hámarksstig
Continental
Michelin
Ónegld
Nokian
Hankook
Goodyear
Bridgestone
Sailun
Nagladekk
Hröðun á ís
5
5
4
2
5
4
3
4
1
Hemlun á ís
15
15
12
9
12
9
9
9
3
Akstur á ís
15
15
15
15
12
9
9
9
3
Stig á ís
35
35
31
26
29
22
21
22
7
Hröðun í snjó
5
5
4
5
4
4
4
3
2
Hemlun í snjó
10
10
8
10
8
8
8
6
4
Akstur í snjó
10
10
8
10
8
8
4
6
2
Stig í snjó
25
25
20
25
20
20
16
15
8
Hemlun í bleytu
10
10
6
6
8
6
8
6
6
Akstur í bleytu
5
2
3
2
5
4
4
4
1
Flot
5
3
2
2
2
4
3
2
2
Stig í bleytu
20
15
11
10
15
14
15
12
9
Hemlun í þurru
5
4
4
5
3
3
4
2
2
Akstur í þurru
5
2
5
2
3
3
4
4
2
Stig í þurru
10
6
9
7
6
6
8
6
4
Viðnám
5
3
4
3
3
4
3
4
3
Veggnýr
5
4
5
5
2
3
4
3
1
Samtals
100
88
80
76
75
69
67
62
32
1
2
3
4
5
6
7
8
Sæti
HEMLUN Á ÍS
HRÖÐUN Á ÍS
Hröðun frá 5-25 km/h mælt í sekúndum
AKSTUR Á ÍS
Brautarakstur mælt í sekúndum
ABS hemlun úr 25 - 5 km/h mælt metrum
Continental
4,14
Continental
8,67
Ónegld
51,35
Nokian
4,27
Michelin
9,42
Continental
52,64
Michelin
4,51
Nokian
9,68
Michelin
52,89
Bridgestone
4,88
Ónegld
10,64
Nokian
53,92
Hankook
4,94
Goodyear
10,87
Hankook
55,52
Goodyear
5,03
Bridgestone
10,88
Bridgestone
55,94
Ónegld
5,16
Hankook
10,97
Goodyear
56,63
Sailun
6,58
Sailun
13,97
Sailun
60,11
HRÖÐUN Í SNJÓ
HEMLUN Í SNJÓ
Hröðun frá 5-40 km/h mælt í sekúndum
AKSTUR Í SNJÓ
ABS hemlun úr 40 - 5 km/h mælt metrum
Brautarakstur mælt í sekúndum
Ónegld
4,05
Continental
16,7
Continental
83,75
Continental
4,06
Ónegld
16,9
Ónegld
85,59
Michelin
4,17
Michelin
17,9
Michelin
86,49
Goodyear
4,2
Goodyear
18
Nokian
87,54
Nokian
4,23
Nokian
18
Hankook
87,93
Hankook
4,27
Hankook
18,1
Bridgestone
88,07
Bridgestone
4,4
Bridgestone
18,4
Goodyear
89,15
Sailun
4,57
Sailun
19,2
Sailun
93,63
HEMLUN Í BLEYTU
FLOT
HEMLUN Í ÞURRU
Hemlun úr 80 - 0 km/h
Hemlun úr 100 - 0 km/h
Mældur hraði við flot í 9 mm. vatni
Continental
28,8
Ónegld
43
Hankook
62,2
Goodyear
29,8
Continental
44,9
Goodyear
60,9
Nokian
29,9
Goodyear
46,2
Continental
60,3
Bridgestone
30,8
Michelin
46,7
Sailun
58,6
Michelin
31
Nokian
47,1
Bridgestone
58,2
Ónegld
31
Hankook
47,8
Michelin
58,1
Sailun
31,3
Bridgestone
48
Nokian
57,5
26Hankook
31,4
Sailun
48,2
Ónegld
57
HVAÐA VETRARDEKK
HENTAR ÞÉR BEST? GSI - 5
G3S - ICE
Snowprox S 953
Óneglanleg - fólksbílar og jepplingar/jeppar
Neglanleg - fólksbílar og jepplingar/jeppar
Óneglanleg - fólksbílar og jepplingar
Toyo harðskeljadekk eru einstök við íslenskar aðstæður.
Byltingakennd nýjung frá Toyo. Neglanlegt harðskeljadekk.
Vetrardekk sem býður uppá mjög gott grip, frábæra aksturseiginleika og þægindi í akstri.
Winter Ice Zero
Cinturato Winter
Scorpion Winter
Negld - fólksbílar og jepplingar
Óneglanleg - fólksbílar og jepplingar
Óneglanleg - jepplingar/jeppar
Sérhönnuð nagladekkfyrir akstur við erfiðustu vetraraðstæður, glæra hálku og ísingu.
Hönnuð fyrir ískalda og hála vetrarvegi með öryggi og frábæra aksturseiginleika í fyrirrúmi.
Sérstaklega hannað óneglanlegt vetrardekk fyrir jeppa og jepplinga.
G-force Stud
G-force Winter 2
A/T KO2
Negld - fólksbílar og jepplingar
Óneglanleg - fólksbílar og jepplingar
Fyrir jeppa
Tryggja fullkomna aksturseiginleika við allar aðstæður og veðurskilyrði.
Frábær vetrardekk án nagla og um leið eitt hentugasta heilsársdekkið á markaðnum.
Áratugalöng reynsla erlendis og á Íslandi. Dekk sem er hægt að nota árið um kring.
M/T KM2
M/T KM3
Arctic NP3 / NS3
Fyrir jeppa
Fyrir jeppa
Negld - fólksbílar og jepplingar
Öflug og endingargóð með munsturkubbum sem ná út yfir axlarsvæði og niður á hliðar.
Nýjung frá einum þekktasta framleiðanda í heimi. Öflug dekk til heilsársnotkunar.
Grípa einstaklega vel á ís og hreinsa sig vel í vetrarfærðinni. Góð dekk á mjög góðu verði.
Presa Spike
Winter Claw MX
Wintersafe
Negld - sendibílar
Neglanleg - fólksbílar og jepplingar
Óneglanleg - fólksbílar
Gríðalega sterk og áreiðanleg dekk með hörku vetrarmunstri.
Örugg og ódýr vetrardekk. Mikill fjöldi flipa tryggja frábært grip á hálum vetrarvegum.
Hannað með nútíma flipamunstri með góðu gripi í snjó og hálku.
Breiðhöfða 13 110 Reykjavík 590 2080
Fiskislóð 30 101 Reykjavík 561 4110
Grjótháls 10 110 Reykjavík 561 4210
Lyngási 8 210 Garðabæ 565 8600
Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333
Njarðarnesi 1 603 Akureyri 460 4350
27 561 4200 / nesdekk.is
LÆGSTA VE ÖLLUM LAN UM OG ÓDÝ ELDSNEYTI Á DALVEGI REYKJAVÍK SKILYRÐISLAUST
28
ERÐIÐ Í NDSHLUTÝRASTA I LANDSINS OG Á KURVEGI 29
Ónegld dekk 1
2
Continental VikingContact 7
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:
T(190 km/h) 98 Vika 47, 2018 Þýskaland BJB-Mótorstilling 38.200 kr.
89
Nokian Hakkapeliitta R3
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:
T(190 km/h) 98 Vika 30, 2018 Finnland MAX1 33.990 kr.
STIG
84
STIG
VC7 kom á markað á seinasta ári og hefur staðið uppi sem sigurvegari í ýmsum prófum. Niðurstöður úr þessum prófunum sýna fram á að það stendur vel undir nafni.
Hakkapeliitta R3 hefur gott grip í vetraraðstæðum og skorar einna hæst allra ónegldra dekkja þegar kemur að skörpum beygjum.
Continental var með mýkstu gúmmíblönduna af öllum dekkjunum sem voru prófuð að þessu sinni. Þrátt fyrir að hafa ekki nagla stóð dekkið sig sérstaklega vel þegar kom að gripi á ís og í snjó. Dekkið er auðvelt í keyrslu jafnvel þegar farið er í skarpar beygjur og losar síðan grip með léttri undirstýringu.
Dekkið svarar vel upp í stýri, er auðvelt í akstri og veitir góða öryggistilfinningu við akstur á ís og í snjó. Nokian fylgir Continental fast eftir með bestu niðurstöður við akstur í vetraraðstæðum.
VC7 hefur tekist að tvinna saman mýkt, gúmmíblöndu fyrir vetraraðstæður án þess að fórna viðbragði og stöðugleika í stýringu á þurru malbiki. Stærsti veikleikinn kemur í ljós við akstur á blautum vegi þar sem það fer að fljóta fyrst af öllum dekkjum. Án efa vinningsdekkið – aftur.
Kostir: Grip við vetraraðstæður, akstursánægja.
Kostir: Grip á ís og í snjó, hljóðlát.
Ókostir: Flot, stýring á þurrum vegi.
Ókostir: Flot.
3
Goodyear Ultra Grip Ice2 Sound Comfort
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
T(190 km/h) 98 Vika 12, 2018 Pólland Klettur 40.700 kr.
Á þurru malbiki veitir dekkið ekki alveg nógu góð viðbrögð upp í stýri en skilar hlutverki sínu annars ágætilega án óvæntrar uppákomu. Nokian fellur undir meðaltali í einkunn þegar kemur að mælingu á floti en við hemlun á blautu malbiki tekur Nokain fyrsta sætið í ónegldum dekkjum. Það er hannað til aksturs í vetraraðstæðum og skilar það dekkinu í annað sæti.
80
4
Nordman RS2
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
T(190 km/h) 98R Vika 44, 2018 Rússland Max1
STIG
Goodyear er einn af fáum framleiðendum til að bjóða upp á hljóðdempandi tækni í vetrardekkjum, svokallað „SoundComfort“. Á sú tækni frekar við um lág sumardekk. Hingað til hefur Ice2 verið fremur hávært dekk en með SoundComfort tekst því að vera hljóðlátasta dekkið í prófunum. Ice2 er eitt af fáum naglalausum dekkjum sem nýtur sín vel á blautu malbiki. Það nær öruggu forskoti við akstur í braut og hefur bestu einkunn við mælingar á floti. Að auki er það stöðugasta dekkið á þurru malbiki.
71
STIG
Nordman RS2 er í raun eldri útgáfa af Nokian Hakkapeliitta R sem fékk nýtt líf undir nýju nafni. Þrátt fyrir að hafa verið í framleiðslu í nokkur ár er dekkið vel samkeppnishæft við nýju dekkin þegar kemur að vetrarakstri. Í samanburði við Nokian skortir Nordman hina skörpu viðbragðseiginleika Nokian. Nordman missir grip fyrr og er ekki jafn auðstjórnað. Á malbiki og þá sérstaklega á blautu tapar Nordman mörgum stigum. Dekkið hefur lengstu bremsuvegalengdina og eins og mörg önnur ónegld dekk á það erfitt með að ryðja frá sér vatni og fer að fljóta.
Fremur hörð gúmmíblanda, stendur sig ágætlega við vetraraðstæður en skortir grip í beygjum þar sem Nokian og Continental njóta sín betur.
Á þurru malbiki eru niðurstöðurnar ásættanlegar.
Öruggt þriðja sæti.
Kostir: Grip í vetraraðstæðum, örugg aksturupplifun við akstur í ís og á snjó.
Kostir: Flot, eiginleikar á malbiki, hljóðlátt. Ókostir: Miðlungsgrip þegar beygt er á ís. 30
Gott vetrardekk sem lendir í fjórða sæti.
Ókostir: Flot, grip á blautu og þurru malbiki.
Ónegld dekk 5
6
Sava Eskimo Ice
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
T(190 km/h) 98T Vika 23, 2017 Þýskaland Klettur
66
Yokohama IceGuard IG60
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
T(190 km/h) 94Q Vika 31, 2017 Japan
61
STIG
Vegna skorts á gripi nær þetta undirmerki Goodyear ekki að hærra sæti í þessum prófunum. Sava er í eigu Goodyear og eins og stóri bróðir eru styrkleikarnir mestir við akstur á blautu malbiki og ryður vel frá sér vatni. Það er eingöngu Goodyear sem nær betri niðurstöðum af öllum ónegldu dekkjunum. Eins og samanburðardekkið er Sava hljóðlátt, létt og stöðugt við akstur á þurru malbiki. Upptak og hemlun fá ásættanlega niðurstöðu. Grip í beygjum vefst fyrir dekkinu. Það er þungt í akstri og lætur illa að stjórn og þegar komið er inn í beygju breytist hegðunin skyndilega í yfirstýringu (bíllinn beygir meira en stýrið gefur til kynna) Þessar niðurstöður skila dekkinu fimmta sæti.
Dekkið leitar í undirstýringu og þarf að fara hægt í beygjur. Við aukinn hraða getur einnig orðið vart við skort á gripi á afturhjólum. Hjólbarðinn er ágætur á malbiki og sýnir gott viðbragð upp í stýri en missir síðan marks þegar kemur að skörpum beygjum. Ástandið versnar á blautum vegi. Hann hefur langa bremsuvegalengd, fer hægast yfir í beygjum og vill fara að fljóta full snemma. Með miðlungseinkunn og enga sérstaka eiginleika lendir dekkið í sjötta sæti. Ókostir: Grip á blautum vegi, flot.
Ókostir: Grip í beygjum á ís og í snjó.
8
Samanburðardekk
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
IG60 er nýung frá japanska framleiðendum Yokohama og tekur við af IG50. Niðurstöður prófana eru ásættanlegar en ekkert meira en það.
Kostir: Hemlun í snjó.
Kostir: Flot, akstureiginleikar á malbiki.
7
STIG
T(190 km/h) 98 Vika 16, 2018 Rússland
56
Leao Winter Defender Ice I-15
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
T(190 km/h) 98T Vika 34, 2018 Kína
STIG
Til samanburðar er notað ContiWinterContact TS860 vetrardekk sem hefur fengið góða dóma fyrir vetrarakstur. Dekkið er hannað sérstaklega fyrir akstur í bleytu við frostmark. Dekkið var með yfirburði þegar kom að akstri á auðum vegi og þá sérstaklega blautu malbiki þar sem veikleiki norrænu nagladekkjanna lá. Þegar kom að akstri í snjó og þá sérstaklega ís stóð dekkið sig ekki jafn vel. Dekkið lætur ökumann vita í tíma þegar komið er að þolmörkum á gripi sem gerir það auðakanlegt þrátt fyrir slakt grip. Þetta eru fyrirsjáanleg og þægileg akstursdekk þrátt fyrir slakt grip. Ágætur kostur ef meiri hluti af akstri fer fram á auðum og greiðfærum vegum. Hins vegar veldur slök niðurstaða úr vetrarprófunum því að dekkið hafnar í sjöunda sæti. Kostir: Rásfast við akstur á þurrum og blautum vegi. Ókostir: Grip á ís, veggnýr, iðnám við yfirborð og eyðsla elsneytis
48
STIG
Lágt verð forðar Leao ekki frá því að lenda í neðsta sæti. Kínverska merkið Leao, sem er í eigu Linglong, þykir aðlaðandi vegna hagstæðs verðs. Í vetrarprófununum stóð Leao sig furðuvel í samanburði við stærri framleiðendur. Þá ryður gróft munstrið vel frá sér vatni sem dregur úr hættu á floti. Veikleikarnir koma þó fljótt í ljós undir álagi. Á ís og í snjó getur dekkið skyndilega misst grip og á í erfiðleikum með að ná sér á strik aftur. Við akstur á þurru malbiki nær dekkið ekki að fylgja skörpum beygjum, jafnvel á lágum hraða. Sama á við um akstur í bleytu en það skrikar til í hverri beygju. Dekkið á því skilið seinasta sæti. Kostir: Ágætt grip í vetraraðstæðum. Ókostir: Aksturseiginleikar, missir grip óvænt.
31
Hámarksstig
Continental
Nokian
Goodyear
Nordman
Sava
Yokohama
Samanbdekk
Leao
Ónegld dekk
Hröðun á ís
5
5
4
4
4
3
3
2
2
Hemlun á ís
15
15
15
9
15
9
9
3
6
Akstur á ís
15
15
15
9
12
9
9
6
6
Stig á ís
35
35
34
22
31
21
21
11
14
Hröðun í snjó
5
5
4
4
4
4
3
2
3
Hemlun í snjó
10
10
8
8
8
8
8
4
6
Akstur í snjó
10
10
8
8
6
4
6
4
4
Stig í snjó
25
25
20
20
18
16
17
10
13
Hemlun í bleytu
10
8
10
10
4
6
4
10
4
Akstur í bleytu
5
3
4
5
3
4
3
5
3
Flot
5
2
2
5
2
4
2
5
4
Stig í bleytu
20
13
16
20
9
14
9
20
11
Hemlun í þurru
5
5
4
4
3
3
3
5
3
Akstur í þurru
5
3
3
4
2
4
3
5
1
Stig í þurru
10
8
7
8
5
7
6
10
4
Viðnám
5
3
4
5
4
4
4
3
3
Veggnýr
5
5
3
5
4
4
4
2
3
Samtals
100
89
84
80
71
66
61
56
48
1
2
3
4
5
6
7
8
Sæti HRÖÐUN Á ÍS
HEMLUN Á ÍS
Hröðun frá 5-25 km/h mælt í sekúndum
AKSTUR Á ÍS
Brautarakstur mælt í sekúndum
ABS hemlun úr 25 - 5 km/h mælt metrum
Continental
5,16
Continental
10,64
Continental
34,5
Nokian
5,76
Nordman
10,83
Nokian
34,5
Goodyear
6,25
Nokian
10,84
Nordman
35,5
Nordman
6,28
Sava
11,48
Yokohama
34,5
Sava
6,55
Yokohama
11,49
Goodyear
34,5
Yokohama
6,65
Goodyear
11,75
Sava
36,2
Leao
7,45
Leao
12,31
Leao
36,6
Samanb.dekk
7,61
Samanb.dekk
14,15
Samanb.dekk
34,5
HRÖÐUN Í SNJÓ
HEMLUN Í SNJÓ
Hröðun frá 5-40 km/h mælt í sekúndum
AKSTUR Í SNJÓ
ABS hemlun úr 40 - 5 km/h mælt metrum
Brautarakstur mælt í sekúndum
Continental
4,05
Continental
16,9
Continental
85,59
Nokian
4,24
Sava
17,5
Goodyear
86,12
Nordman
4,28
Nokian
17,7
Nokian
87,04
Sava
4,29
Goodyear
17,8
Nordman
89,17
Goodyear
4,3
Yokohama
17,9
Yokohama
89,42
Yokohama
4,41
Nordman
18,1
Samanb.dekk
90,81
Leao
4,42
Leao
18,3
Leao
91,31
Samanb.dekk
4,55
Samanb.dekk
18,9
Sava
92,02
HEMLUN Í BLEYTU
Samanb.dekk
FLOT
HEMLUN Í ÞURRU
Hemlun úr 80 - 0 km/h
Hemlun úr 100 - 0 km/h
Mældur hraði við flot í 9 mm. vatni
26,6
Samanb.dekk
41,9
Nokian
30
Continental
43
Samanb.dekk
74,9
Goodyear
Goodyear
30,5
Nokian
44,8
Sava
70,4 65
Continental
31
Goodyear
45
Leao
62,8
Sava
32,8
Yokohama
46,3
Nokian
58,5
Yokohama
33,6
Nordman
46,4
Nordman
58,4
Leao
33,8
Sava
46,6
Yokohama
57,6
32Nordman
34,1
Leao
46,8
Continental
57
KEYRÐU Á ÖRYGGI! Styrktu Bleiku slaufuna og kauptu Nokian gæðadekk á frábæru verði! Á Íslandi vitum við að vetrarveður getur þýtt allskonar veður. Þess vegna hefur Nokian þróað vetrar- og nagladekk sem henta fjölbreyttu veðurfari norðlægra slóða og tryggir öryggi farþega bílsins. Hluti af söluágóða Nokian gæðadekkja í október og nóvember rennur til Bleiku slaufunnar.
SENDUM UM ALLT LAND
FLUTNINGUR MEÐ FLYTJANDA 750 KR. HVERT DEKK
FINNDU DEKKIN ÞÍN Á MAX1.IS
MI:
MI:
VERÐDÆ
NOKIAN AN7 NORDM 205/55
R16
R./STK.* 15.990 K
VERÐDÆ
NOKIAN WPROOF WR SNO 15
185/60 R
R./STK.* 11.990 K
MI:
VERÐDÆ
NOKIAN N7 SUV NORDMA 17
235/55 R
R./STK.* 29.990 K
MI:
VERÐDÆ
V4
R SU NOKIAN W 17
235/55 R
R./STK.*
28.990 K
*FAST VERÐ Opnunartími: Virka daga kl. 8-17 og laugardaga sjá MAX1.IS Bíldshöfða 5a 110 Reykjavík | Jafnaseli 6 109 Reykjavík | Dalshrauni 5 220 Hafnarfirði | S. 515 7190
MAX1.IS 33
Rúðuvökvakönnun Mikilvægur öryggisþáttur við akstur er að tryggja gott útsýni ökumanns. Fjölmargir þættir geta spilað þar inn í eins og ástand á rúðum, rúðuþurrkur, hönnun bíls og óhreinindi. Nú þegar veturinn er genginn í garð mæðir mikið á að halda rúðum hreinum til að tryggja sem besta útsýni og þar spilar stóran þátt rúðuþurrkur og rúðuvökvi.
Úrvalið af rúðuvökvum er nær ótæmandi og eru þeir jafn mismunandi og þeir eru margir. Oftar en ekki er horft til frostþols vökvans en hann getur verið allt frá 0 gráðum niður í 50 og fer oft verðið eftir því. Hin „hefðbundni“ vökvi sem hefur fengist á bensínstöðvum er yfirleitt gefin upp með frostþol á -18⁰ en meira er farið að sjást af vökvum sem hafa aðra eiginleika eins og að vinna vel á skordýrum eða mynda verndarfilmu á framrúðunni.
eins og Rain-X 2 in 1 sem er segir efnið mynda filmu sem hrindi frá sér óhreinindum og vinnur vel á skordýrum. Þá er það Vaskur sem er að sögn sérblandaður fyrir íslenskar aðstæður á að auka á endingu þurrkublaða. Gott er að hafa í huga að frostþol segir ekki alla söguna þar sem vindkæling spilar stórt hlutverk. Þannig getur rúðuvökvi snöggfryst á kaldri framrúðu þrátt fyrir að útihiti sé mun lægri en uppgefið frostþol. Aðeins einn rúðuvökvi var í mjúkri pakkningu og kom hann úr Bauhaus og eiga þær pakkningar að notast aðeins við þriðjung af því plasti sem er annars notað í hefðbundna brúsa pakkningu.
Þá má einnig benda á að rúðuvökva er hægt að fá afgreiddan beint á bílinn á sumum bensínstöðvum og við sjálfsafgreiðslustöðvar og þannig draga úr plastnotkun. Frystikistuprófið
Óformlegt frostþolspróf var framkvæmt þar sem öllum vökvum var komið fyrir í frysti með stillingu á -18⁰. Niðurstöðurnar voru frekar slakar þar sem nær allir vökvar sem voru uppgefnir á frostþol -18⁰ voru byrjaðir að krapa og í verstu tilfellum ekki hægt að ná þeim úr pakkningu. Þar sem um óformlega rannsókn var að ræða þá þykir ekki rétt að birta niðurstöður að svo stöddu.
FÍB tók saman helstu rúðuvökva sem eru til sölu í dag frá ýmsum framleiðendum. Voru vökvarnir bornir saman út frá verði og frostþoli. Eins sjá má á meðfylgjandi töflu kemur í ljós að ódýrasta lítraverðið er á -9⁰ rúðuvökva úr Bónus eða 100 krónur á lítra. Sér horft út frá kostnaði miðað við frostþol þá hefur Kroon Oil rúðuvökvinn frá Bílanaust vinninginn eða 8 krónur á hverja gráðu. Nokkrir vökvar í könnuninni buðu upp á fleiri eiginleika sem geta haft áhrif á kostnað
Tegund
Lítrar
Frostþol
Verð
Lítra verð
Mjöll/Frigg Rúðuvökvi Mjöll/Frigg Rúðuvökvi Vaskur Sonax ICE Fresh Venol Rúðuvökvi Kroon Oil
5 2,5 5 5 4 5
-9 -18 -18 -20 -18 -20
498 kr 529 kr 998 kr 1.690 kr 639 kr 795 kr
100 kr 212 kr 200 kr 338 kr 160 kr 159 kr
Verð per gráðu 11 kr 12 kr 11 kr 17 kr 9 kr 8 kr
Rain-X
3,78
-32
1.195 kr
316 kr
10 kr
Bílanaust, Stilling, Poulsen
Olís Rúðu-hreinsir
2,5
-18
849 kr
340 kr
19 kr
Olís
Eurol þykkni 1/1
2
-22
635
318 kr
14 kr
AB Varahlutir
Valvoline þykkni 1/1
2
-20
534 kr
267 kr
13 kr
Poulsen
Bauhaus Alaska
3
-21
495 kr
165 kr
8 kr
Bauhaus
N1 Rúðuvökvi
2,5
-18
849 kr
340 kr
19 kr
N1
34
Söluaðili Bónus Húsasmiðjan Stilling Bílanaust Kvikk Bílanaust
Samanburður á rúðuvökvum 400 kr
20 kr 18 kr
350 kr
16 kr
300 kr
14 kr
250 kr
12 kr
200 kr
10 kr 8 kr
150 kr
6 kr
100 kr
4 kr
50 kr
2 kr
0 kr
0 kr
Lítra verð
Verð per gráðu
35
Reynsluakstur: Mazda CX 30 Það ríkti eftirvænting og tilhlökkun að setjast undir stýri og reynsluaka Mazda CX 30 Sky. Þegar maður er búinn að skoða bílinn vel að innan og koma sér vel fyrir grípur mann góð tilfinning. Hönnunin er til fyrirmyndar, bæði í fram- og aftursætum. Útsýnið er ágætt og ekkert að vanbúnaði að renna af stað og fá úr því skorið eftir bestu getu hvað þessi bíll hefur upp á að bjóða. Það kemur brátt í ljós hvað þessi jepplingur er mjúkur, snöggur og mjög þægilegur í akstri, hvort sem ekið er á vegi með bundnu slitlagi eða á malarvegi. Hönnunarsérfræðingar Mazda hafa greinilega unnið sína vinnu. Í akstri í möl komu greinilega í ljós sterkir eiginleikar bílsins. Undir þeim kringumstæðum stóð bíllinn vel fyrir sínu og þar kom berlega hversu mjúkur hann er.
36
Rúmt um farþega í aftursætum Þegar plássið í bílnum er skoðað betur stingur hvað rúmt er um farþega í aftursætum. Þar ætti að fara vel um hávaxinn einstakling, rýmið notalegt og gott útsýni. Þá er vert að geta þess að allt aðgengi að bílnum er gott og þægilegt að setjast inn í hann. Þetta atriði skiptir þá einstaklinga miklu máli sem eiga við stoðkerfisvandamál að stríða. Stjórntækjum vel komið fyrir Hvað hönnun bílsins áhrærir er stjórntæki komið fyrir á stokk á milli sætanna og þaðan er öllu stýrt sem kemur upp á skjá á mælaborðinu. Þetta er góð útfærsla fyrst skjárinn er ekki inn í mælaborðinu. Önnur þægindi sem má nefna eru bakkmyndavél, GPS vegaleiðsögn með Íslandskorti, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, blindpunktsaðvörun, lyklalaust aðgengi, 8,8“ skjá, stafrænt
mælaborð, framrúðuskjár (head up display) og rafdrifinn afturhlera. Ekki verður hjá því komist að nefna M-hybrid tækni Mazda sem lyftir bílnum á hærra plan. Þetta kerfi er alfarið tölvustýrt og sjálfvirkt, eykur öryggi og kraft bílsins. Fleira mætti telja til. Skyactive G bensínvélin sérlega vel útfærð Eins og áður kom fram er ágætis kraftur í bílnum. 122 hestöflin skila sér vel en Skyactive G bensínvélin er sérlega vel útfærð hjá sérfræðingum Mazda sem lögðu mikla vinnu í útfærsluna. Þetta gerir það að verkum að vélin eyðir minna en gengur og gerist. SKYACTIV vél Mazda CX-30 getur einnig slökkt á einum eða fleiri strokki í vélinni til að spara eldsneyti, auknum krafti, meiri afköstum og stjórnun. SKYACTIV-G 2,0 lítra bensínvélin er með hátt þjöppunarhlutfall sem leiðir til minni losunar mengandi efna og betri eldsneytisnýtingu.
Mazda fæst bæði fram- og fjórhjóladrifin.
Í akstri í möl komu greinilega í ljós sterkir eiginleikar bílsins.
Farangursrýmið full lítið Það er eins með þennan bíl og marga aðra að farangursrýmið mætti vera stærra. Þessi rými voru stærri áður en með tíð og tíma hafa þau minnkað af einhverjum ástæðum. Það er miður því það getur verið ansi snúið að koma farangri niður þegar kannski fimm manna fjölskyldan er að leggja upp í för, hvort heldur er út á land eða út í Leifsstöð. Góður valkostur – enginn bíll gallalaus Mazda CX-30 er nýr bíll í jeppalínu bílaframleiðandans og kemur sem viðbót við CX-3 og CX-5 sem hafa slegið í gegn á Íslandi. Mazda CX-30 er búinn nýjustu tækni þar sem áherslan er á góða aksturseiginleika, sparneytni. Um það eru bílagagnrýnendur víðast hvar sammála um. Þess má geta að í nóvember kemur til landsins fjórhjóladrifin bíll sem gerir hann enn álitlegri kost til kaupa. Þegar á öllu er botninn hvolft er enginn bíll gallalaus. Kostirnir sem Mazda CX 30 býr þó yfir eru fleiri en gallarnir. Þetta er tvímælalaust góður fjölskyldubíll, fínn valkostur í það minnsta í ágætis verðflokki.
Mazda CX-30 Sky Active FWD Aflrás: 2.0 SkyActive Bensín Hámarksafl: 122 hö við 6.000 sn. Hámarkstog: 213 Nm við 4000 sn. Verð frá: 4.050.000 kr. Eldsneytisnotkun (skv.
Stjórntækjum komið fyrir á stokk á milli sætanna
framleiðanda): 5,1 l/100 m.eyðsla Losun CO2: 116 g/km Eiginþyngd: 1320 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.395 / 1.795 (með speglum) / 1.540 Veghæð (mm): 170 mm.
Rúmt er um farþega í aftursætum, rýmið notalegt og gott útsýni
Afl, þægindi
Skottpláss 37 Farangursrýmið mætti vera stærra
Reynsluakstur: Opel Ampera-E Rafbílaflóran er sífellt að stækka og bílaframleiðendur keppast um að koma framleiðslu sinni út til neytenda. Eftirspurnin er vissulega til staðar og standa flestir framleiðendur frammi fyrir því lúxusvandamáli að anna ekki eftirspurn. Þá hefur þurft að grípa til skömmtunar og jafnvel seinka sölu á ákveðnum markaðssvæðum þar til hægt hefur verið að anna eftirspurn. Opel Ampera-e er ágætis dæmi um fyrrnefnt „vandamál“ þar sem fyrstu bílarnir rúlluðu af færibandi undir merkjum Chevrolet í lok árs 2016. Vorið 2017 hófst síðan sala til ákveðinna landa í Evrópu og tók þar rafbílaþjóðin Noregur forystuna í sölu bílsins undir merkjum Opel. Strax í upphafi var búið að panta yfir 4000 bíla í Noregi og afhending hefur dregist allt að ár fram í tímann. Þrátt fyrir mikinn áhuga á Ampera-e hér á landi hafði Opel umboðið ekki erindi sem erfiði, eins og mörg önnur lönd. Í júní á þessu ári var forsvarsmönnum Opel
38
boðið til landsins þar sem þeir fengu að kynnast orkumálum og innviðauppbyggingu sem hefur farið hér fram á seinustu árum. Í kjölfarið ákváðu þeir að hefja sölu á Opel Ampera-e til landsins og komu fyrstu bílarnir hingað til lands mánuði síðar. Að innan Opel Amepera-e er hannaður frá grunni sem rafbíll og gefur það honum gott forskot á ýmsa aðra rafbíla á markaðnum. Ekki er gert ráð fyrir sprengihreyfli í húddinu eða bensíntanki svo að eitthvað sé nefnt og því er hægt að fullnýta allt pláss og ná fram eins góðri þyngdardreifingu og kostur er. Öll umgengni um bílinn er sérstaklega þægileg, sætin eru í góðri hæð og setjast má beint inn og engir kantar eru í hurðarfalsi og gólfin rennislétt. Pláss fyrir farþega í aftursætum er óvenjulega gott, bæði fyrir fætur og höfuð. Heilt á litið er innréttingin þétt með þokkalegt geymslupláss. Stórir gluggar gefa létt yfirbragð og auðvelt er að sjá út. Gott
hefði þó verið að hafa hæðarstillingu á öryggisbeltum. Skottið er gott dæmi um það pláss sem hönnuðir hafa fengið þar sem ekki þurfti að gera ráð fyrir útblásturkerfi eða eldsneytistönkum. Þrátt fyrir að sjálfur skottflöturinn sé ekki ýkja stór skilar dýptin 381 lítrum í skottplássi og verður það að teljast gott miðað við bíl í þessum stærðarflokki. Með því að fella niður sætin eykst rýmið í 1274 lítra en eins og hjá mörgum öðrum rafmagnsbílum myndast umtalsverð brík og getur torveldað hleðslu á lengri hlutum. Reynsluakstursbíllinn var Premium–útgáfa og því með flestum þeim aukabúnaði sem í boði er:leðuráklæði, hita í fram- og aftursætum og Bose hátalarakerfi svo að eitthvað sé nefnt. Upplýsingakerfi bílsins er einfalt og myndrænt. Bíllinn er ekki útbúinn leiðsögukerfi en í boði er að tengjast við kerfi bílsins um Android- og Apple-síma og nýta þannig leiðsögubúnað símans.
Að utan Opel Ampera-E er snaggaralegur bíll með íhaldssamri hönnun þar sem ekki er farið í einhverjar framúrstefnulegar æfingar eins og stundum vill verða á rafmagnsbílum. Premium–útgáfan skartar 17 tommu álfelgum sem gera mikið fyrir bílinn. Akstur Það er alltaf ánægjulegt að reynsluaka bílum sem afsanna þá kenningu að „praktískir“ bílar séu leiðinlegir í akstri. Þrátt fyrir fremur stífa fjöðrun og breið dekk er bíllinn fremur hljóðlátur í akstri, mótorinn er öflugur og skilar bílnum í 100 km/klst. á aðeins 7,3 sekúndum. Rafhlöðum bílsins er dreift jafnt yfir botn bílsins og skilar það ákjósanlegri þyngdardreifingu. Í heildina skilar þessi blanda afbragðs skemmtilegum akstursbíl. Öflug LED–framljós eru staðalbúnaður í öllum útgáfum og standa þau sig vel í þjóðvegaakstri að næturlagi. Þó þyrfti að hafa í huga að við inngjöf tekur bíllinn svo hraustlega við sér að framendinn lyftist upp og ljósin verða eins um háuljós sé að ræða. Þetta getur verið pínlegt til dæmis við framúrakstur.
Það verður ekki hjá því komist að ræða um rafmagnsbíla án þess að fara yfir drægnina en Opel Ampera-e býður upp á eina stærð af rafhlöðu sem er 60 kílóvattstundir og skilar bílnum yfir 400 kílómetra á góðum degi. Áhyggjur af drægi eru hverfandi á rafbílamarkaðnum sérstaklega þegar rafhlöðurnar eru orðnar jafn stórar og í þessum bíl og kemst bíllinn leikandi yfir nokkra daga í innanbæjarakstri án hleðslu. Vert er að benda á gagnlega reiknivél á opel.is sem sýnir á einfaldan hátt hversu mikil áhrif búnaður og akstur hefur á drægi bílsins. Endurhleðslubremsan í Amperunni er sérstaklega þægileg þar sem hún hægir þétt á bílnum og stoppar hann alveg. Með smá æfingu er því hægt að aka innbæjar með inngjafarfetlinum einum saman. Öryggi Öryggi vegur sífellt þyngra þegar kemur að vali á nýjum bíl. Það voru því ákveðin vonbrigði þegar Opelinn fékk fjórar stjörnur af fimm árekstrarprófunum Euro Ncap. Þegar rýnt er nánar í niðurstöður þessara prófana stóð bíllinn sig ágætlega í prófununum sjálfum en skortur á öryggisbúnaði, eins og viðvörun fyrir aftursætisbelti og festingar fyrir barnabílstóla, virðast hafa kostað bílinn einhver stig. Hvort það hefði skilað honum fimmtu stjörnunni skal ósagt látið en flest atriðin virðast einföld og lítil fyrirstaða að bæta þeim við í framleiðsluferlinu. Meðal búnaðar í bílnum eru árekstrarvörn, akgreinavari með hjálparstýringu, ISOfix í aftursætum, svo eitthvað sé nefnt.
Pláss fyrir farþega í aftursætum er gott, bæði fyrir fætur og höfuð.
Niðurstaða Opel Ampera-e kemur skemmtilega á óvart hvað varðar rými og aksturseiginleika. Hann er auðveldur í umgengni, hentar fjölskyldum jafnt og einstaklingum. Þá gefur gott drægi tækifæri til aukinnar notkunar á landsbyggðinni, t.d. fyrir þá sem sækja vinnu eða þjónustu um lengri veg. Þegar horft er til samkeppnisaðila í sama verðflokki er einna helst hægt að benda á skort á staðalbúnaði. Grunnútgáfa bílsins kostar rétt undir fimm milljón krónur en fyrir sexhundruð þúsund til viðbótar er hægt að hoppa í dýrustu útfærslu sem er umtalsvert betur útbúin.
Opel Ampera-E Aflrás: 150 kW rafmagnsmótor Hámarksafl: 204 hö. Hámarkstog: 360 Nm. Verð frá: 4.990.000 kr. Rafhlaða: 60 kWh. Rafmagnsnotkun (WLTP): 15,3 kWh/100km Drægni skv. framleið.: 423 km. Losun CO2: 0 g/km Eiginþyngd: 1691 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.164 / 1.854 (án spegla) / 1.594 Veghæð (mm): 131 mm. Aksturseiginleikar Rými og umgengni
Staðalbúnaður
Upplýsingakerfi bílsins er einfalt og myndrænt.
39
Ísland á toppnum í verðlagningu á bensíni og dísilolíu Samkvæmt samanburði á verðlagningu á bensíni og dísilolíu í 30 löndum njótum við Íslendingar þess vafasama heiðurs að vera þar á toppnum: Íslenskir neytendur borga hæsta verðið fyrir eldsneytið. Noregur kemur fast á hæla okkar. Þessi olíuframleiðsluþjóð, sem löngum hefur verið helsti birgir íslensku olíufélaganna, er þekkt fyrir hátt eldsneytisverð til neytenda. Gögnin eru fengin frá systurfélagi FÍB í Bretlandi, Automobile Association (AA), og miðast við verðlagningu á eldsneyti í júlí sl. Verðin voru uppreiknuð yfir í íslenskar krónur miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands í lok þess mánaðar. Eldsneytisverðið hjá ÓB hinn 25. júlí er notað í þessum samanburði. Verðmunur á bensínlítra á milli Íslands og Noregs er ekki marktækur þar sem hann er aðeins rúm ein króna. Verðmunurinn er mun meiri á dísilolíunni eða tæpar 11 krónur miðað við næst dýrasta dísillítrann sem fæst einnig í Noregi.
Í lok júlí 2018 var munurinn á hæsta og lægsta verði á höfuðborgarsvæðinu 40 krónur á bensínlítra og 37,40 krónur á dísillítra. Costco bauð ódýrasta eldsneytið en N1 og Olís voru með hæsta verðið. Verðmunurinn er mestur á höfuðborgarsvæðinu. Verðið á tveimur stöðvum Atlantsolíu, tveimur stöðvum Orkunnar og þremur stöðvum ÓB sem bjóða ódýrasta verðið fyrir utan Costco var ríflega 32 krónum undir algengasta verði á dælustöðvum þessara sömu félaga og um 37 krónum undir hæsta verðinu hjá N1. Margir viðskiptavinir eru með afslátt á lítraverði á öðrum stöðvum en þessum sjö ódýrari. Verðmunurinn utan höfuðborgarsvæðisins er mestur í kringum 10 krónur á lítra. Í Noregi getur verið verulegur verðmunur á milli stöðva. Oft er um að ræða staðbundna samkeppni en einnig getur verið talsverður verðmunur á sömu stöð eftir vikudegi eða tíma dags. Um og yfir 30 króna verðmunur á lítra er eitthvað sem norskir neytendur þekkja vel.
Auðugri löndin er oftast með hærra eldsneytisverð en þar eru Bandaríkin undantekning. Skattar á eldsneyti hafa mikið að segja varðandi verðlagningu enda kaupa nánast öll ríki bensín og dísilolíu á sama verði á heimsmarkaði.
Annað sem hefur áhrif á verð er stærð markaðar, samkeppni og fjarlægð frá birgjum. Til viðmiðunar eru fastir skattar á hvern bensínlítra hér á landi 82,85 krónur og síðan leggst 24% virðisaukaskattur ofan á innkaupsverðið, skattana og álagninguna. Fastur skattur á dísillítra er 74 krónur og 24% í virðisaukaskatt. Í Noregi eru fastir skattar á bensinlítra 88 krónur (umreiknað með gengi í lok júlí) og 70,65 krónur á dísillítra. Virðisaukaskatturinn í Noregi er 25%.
Hringvegurinn allur með bundnu slitlagi Vegagerðin hleypti umferð á nýjan veg í botni Berufjarðar á Austurlandi í byrjun ágúst sl. Þarna er um að ræða 4,9 km langan vegarkafla sem nú er með bundið slitslag. Þetta eru tímamót því að þetta er í fyrsta sinn sem hringvegurinn allur er með bundnu slitlagi. Formleg vígsla þessa vegakafla fór fram hinn 14. ágúst. Haft var eftir Sveini Sveinssyni, svæðisstjóra hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, að um stóra stund væri að ræða en til hafi staðið að setja bundið slitlag á þennan vegarkafla í botni Berufjarðar frá síðustu aldamótum. 40
Hringvegurinn varð til þegar brýr voru teknar í notkun á Skeiðarársandi árið 1974 og hefur því tekið 45 ár að leggja bundið slitlag á hann allan. Framkvæmdir við nýjan veg og nýja fimmtíu metra brú yfir Berufjörð hófust í ágúst 2017 Þessi vegkafli hefur verið einn sá umdeildasti á hringveginum um langt skeið en Sveinn segir að um að ræða malarveg sem þoldi illa umtalsverða rigningu samhliða mikilli umferð. Um þúsund bílar fóru um malarveginn á degi hverjum og varð hann því afar illa farinn í regni.
Hvert á umferðin að fara meðan Miklabraut er lögð í stokk? Allt stefnir í að 1.750 metrar Miklubrautar verði lagðir í stokk fyrir rúmlega 20 milljarða króna. Ekki fylgir hins vegar sögunni hvert umferðin eigi að fara meðan á framkvæmdunum stendur. Ekki þarf mikið ímyndunarafl til að sjá hver áhrifin verða af lokun a.m.k. helmings Miklubrautar í nokkur ár, meðan grafið er fyrir stokknum og hann byggður. Hilmar Þ. Björnsson arkitekt benti á það í grein í Fréttablaðinu 25. október að finna þyrfti annan farveg fyrir þá tæplega 100 þúsund bíla sem fara daglega um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Hann spáir því að framkvæmdatíminn gæti teygst í 5–10 ár. Aðgengi að miðborginni, háskólasvæðinu, vesturbænum og Seltjarnarnesi myndi rýrna verulega að mati Hilmars.
umferðarþunga með tveimur akreinum á mestu annatímum dagsins. Viðbúið er að austur–vestur umferðin færist í staðinn að norðanverðu yfir á Sæbraut og að sunnanverðu yfir á Bústaðaveg. Ferðatími á leið í og úr vinnu gæti orðið klukkutími í hvora átt og það árum saman. Hilmar Þ. Björnsson telur engan vafa leika á því að umferðarvandinn séu til kominn vegna borgarskipulagsins. Mörgum stærstu vinnustöðum borgarinnar hafi verið safnað í miðborgina og t.d. Landspítalinn stækkaður verulega. Hann spyr hvort áhrifin á umferðina hafi ekki legið ljós fyrir þegar unnið var að þessu skipulagi.
Hilmar bendir á að engan veginn sé ljóst hvort leggja þurfi Miklubraut í stokk. Hann segir að leita þurfi leiða til að draga úr þörfinni fyrir aksturinn, ekki síst með áherslu á að borgarhlutar geti verið meira sjálfbærir með daglegar nauðsynjar í göngufæri frá heimilunum. Það mundi draga úr einkabílaumferð svo að um munar. Stokkur um Miklubraut yrði svipað langur og umferðargöngin Götatunneln í miðborg Gautaborgar í Svíþjóð. Þau voru byggð árin 2000–2006 og eru 1.600 metra löng. Kostnaðurinn var 3 milljarðar sænskra króna eða um 40 milljarðar íslenskra króna.
Hann bendir jafnframt á að uppgröftur vegna stokksins verði hátt á aðra milljón rúmmetra af jarðvegi sem þyrfti að moka upp og flytja í burtu. Gera má ráð fyrir að stokkur verði lagður í tveimur áföngum, sunnanmegin og norðanmegin. Í stað tveggja akreina í hvora átt yrði bara ein akrein í hvora átt. Eða þá tvær akreinar aðeins í eina átt. Nú þegar hefur Miklabraut ekki undan
41
Jaguar I-Pace valinn bíll ársins á Íslandi Niðurstaðan í heild varð þessi:
Jaguar I-Pace var valinn bíll ársins 2020 á Íslandi en það er Bandalag íslenskra bílablaðamanna sem stendur að þessu kjöri. Átta blaðamenn tóku þátt í að dæma bílanna að þessu sinni og var því hæstu heildarstig sem hver bíll gat fengið 960 stig. þrír efstu bílarnir sem kepptu um Gullstýrið voru allir í flokki sportjeppa. Jaguar I-Pace varð hlutskarpastur með 775 stig. Í öðru sæti varð Audi e-Tron með 754 stig og þriðja sætið kom í hlut Mercedes-Benz EQC sem hlaut 714 stig.
Minni fjölskyldubílar: 1. sæti - Toyota Corolla 2. sæti - Mazda 3 3. sæti - Volkswagen T-Cross
Flokkarnir þetta árið hafa reyndar aldrei verið fleiri og er það lýsandi fyrir þá fjölbreytni bíla sem bílakaupendur geta valið úr nú um stundir. Það var val okkar dómnefndarinnar að hafa þá sex að þessu sinni, aðallega vegna tilkomu svo margra rafmagnsbíla. Flokkarnir þetta árið voru því minni fólksbílar, stærri fólksbílar, jepplingar, jeppar, rafbílar og rafjeppar.
Stærri fjölskyldubílar: 1. sæti - Peugeot 508 2. sæti - Mercedes-Benz B
Lokaprófanir á bílunum fóru fram 11. október og aldrei þessu vant fóru þær ekki fram á Kvartmílubrautinni, heldur varð fyrir valinu þetta árið að reyna bílana við hversdagslegri aðstæður á hefðbundnum vegum og tvískiptum prófununum, vegna fjölda bílanna. Fyrri hluta dags prófuðum við minni fólksbíla, stærri fólksbíla og rafbíla og lá leiðin í Hvalfjörðinn, sem er þægilega fáfarinn nú orðið, en krefjandi í akstri og skemmtilegur. Seinni hluta dags var svo komið að prófunum á jepplingum, jeppum og rafjeppum og fóru þær fram á Bláfjallaafleggjaranum og Suðurlandsvegi. Reyndist þessi aðferð okkar að þessu sinni mjög vel og gæti gefið tóninn fyrir valið á næsta ári. BÍBB hefur staðið fyrir valinu síðan 2001
3. sæti - Toyota Camry Jeppar 1. sæti - SsangYong Rexton 2. sæti - Jeep Wrangler 3. sæti - Suzuki Jimny
BÍBB hefur staðið fyrir valinu á Bíl ársins frá árinu 2001 og er notast við stigakerfi í tólf flokkum líkt og hjá öðrum þjóðum. Gefin eru stig frá 0 og upp í 10, er því hámarks stigafjöldi hvers bíls 120 frá hverjum dómara. Þess má geta að áður hafði Jaguar I-Pace verið valinn heimsbíll ársins, rafbíll Ársins, hönnun ársins og bíll ársins í Evrópu Í flokki rafbíla hlaut Kia e-Soul flest stig og í flokki jepplinga varð RAV4 í efsta sæti. Í jeppaflokknum hlaut Rexton flest stig og Í flokki stærri fólksbíla hlaut Peugeot 508 flest stig og flokki minni fólksbíla fékk Toyota Corolla flest stig.
Jepplingar: 1. sæti - Toyota RAV4 2. sæti - Mazda CX30 3. sæti - Honda CR-V
Rafbílar: 1. sæti - Kia Soul EV 2. sæti - Hyundai Kona EV 3. sæti - Opel Ampera Rafjeppar: 1. sæti - Jaguar I-Pace 2. sæti - Audi e-Tron quattro 3. sæti - Mercedes-Benz EQC
42
Bíll ársins 2020 Jaguar I-Pace
Skiptir miklu máli á íslenskum markaði að fá þessi verðlaun ,,Við erum að vonum mjög stolt að fá þessi verðlaun. Þetta er bíll sem er hlaðinn verðlaunum og viðurkenningum um allan heim. Það skiptir hins vegar miklu máli á íslenskum markaði að fá verðlaun sem bíl ársins. Ég í störfum mínum hef fengið einu sinni áður svona viðurkenningu en það var 2008 þegar Land Rover Freelander áskotnaðist þessi verðlaun. Það hafði mikið að segja í framhaldinu hvað söluna varðaði. Þetta er bara mikil viðurkenning fyrir hvaða bíl sem er að fá þessi verðlaun,“ segir Karl Óskarsson, sölustjóri Jaguar, í spjalli við FÍB eftir val á bíl ársins hafði verið kunngert. Karl sagðist vonast til að þessi verðlaun hefðu tvímælalaust áhrif á sölu bílsins. Verðlaunin verða alltaf til bóta hvernig sem á það er litið. Jaguar I-Pace kostar á bilinu 9.7-13 milljónir króna. 50 bílar nú þegar seldir frá því í apríl
Finnur Thorlacius frá BÍBB, Bjarni Þórarinn Sigurðsson aðstoðar frkv. stj. Jaguar Land Rover og Karl Óskarsson frá BL veita verðlaununum viðtöku.
,,Jaguar I-Pace er frábær bíll og mörgum kostum gæddur. Hann hefur mikið drægi, fjórhjóla drifinn, á loftpúðum, hægt að hækka bílinn í erfiðum aðstæðum og svona mætti lengi telja. Það er mikið spurst fyrir um bílinn og við erum búnir að selja yfir 50 bíla á árinu síðan í apríl þrátt fyrir minnkandi bílasölu á Íslandi á þessu ári. Rafmagnsbílar eru almennt að koma mjög sterkir inn, það er ekki nokkur vafi á því,“ segir Karl Óskarsson.
Nissan Leaf og Renault ZOE í efstu sætum Keppni í nákvæmnisakstri á rafbílum hér á landi (eRally) fór fram hér á landi í lok ágúst á vegum alþjóðlega aksturssambandsins FIA í tengslum við eina af alþjóðlegum mótaröðum sambandsins sem eknar er víða um heim. BL lánaði mótshöldurum tvo rafbíla til keppninnar og urðu þeir í fyrsta og öðru sæti á íslensku sérleiðinni. Thierry Benchetrit og Arthur Pruzak frá Frakklandi unnu keppnina á Nissan Leaf og í öðru sæti urðu Didier Malga og Valérie Bonnel, einnig frá Frakklandi, á Renault Zoe. Malga og Bonnel unnu þessa sömu keppni hér á landi í fyrra, þá einnig á Renault Zoe frá BL. Auk þess að hljóta önnur verðlaun í ár fengu þau Malga og Bonnel líka sérstök verðlaun að lokinni keppni fyrir bestu orkunýtnina þar sem Zoe kom best út af þeim bílum sem tóku þátt. Malga og Bonnel eru núverandi heimsmeistarar þrátt fyrir að hafa
orðið í öðru sæti á sérleiðinni hér á landi í ár. Pruzac og Benchetrit sigruðu heimsmeistarakeppnina 2015 þegar þeir kepptu á Nissan Leaf. I-Pace og e-NV200 Af öðrum bílum sem BL lánaði til þátttöku í eRally FIA má nefna að Jaguar Land Rover við Hestháls lánaði tvo I-Pace og tók annar þeirra þátt í keppninni en hinn var til afnota fyrir mótsstjórn FIA. Á keppnisbílnum voru Tómas Jóhannesson og Þórður Magnússon og luku þeir keppni í 5. sæti, fyrstir íslenskra áhafna sem þátt tóku í keppninni. Tómas og Þórður unnu svo sparaksturinn í sínum flokki þar sem þeir báru m.a. sigurorð af tveimur ítölskum áhöfnum. Þá var rafsendibíllinn e-NV200 einnig meðal þátttakenda þar sem Andri Vífilsson og Atli Grímur Ásmundsson spreyttu sig í þessari erfiðu nákvæmniskeppni og luku þeir keppni
enda þótt þeir rækju lestina. Hafa ber í huga að verðlaunahafar eRally hafa áralanga reynslu af þjálfun og keppni í nákvæmnisakstri sem þessum en hér á landi er reynslan enn lítil eða engin. eRally Íslenska sérleiðin er hluti alþjóðlegrar mótaraðar FIA sem nefnist Electric and New Energy Championship og er keppni vistvænna ökutækja. Í eRally er ekki keppt í hraðakstri heldur snýst frammistaðan um getu keppenda til að aka fyrirfram ákveðnar leiðir af sem mestri nákvæmni á ákveðnum hraða samkvæmt leiðarbók. Á reglulegu millibili á sérleiðunum eru mælistöðvar þar sem keppendur þurfa að vera á ákveðnum tíma upp á sekúndu. Frávik eru talin til refsistiga. Eknar voru sex mismunandi leiðir í hefðbundinni umferð og að mestu leyti á malbiki en einnig voru eknir malarvegir. 43
Erlendir ferðamenn óku bíleigubílum um 660 milljónir km á Íslandi árið 2018 Sé litið til þróunar síðustu átta ára má áætla að árið 2018 hafi um 1.300 þúsund ferðamenn nýtt bílaleigubíla á Íslandi (60% gesta), samanborið við um 960 þúsund árið 2016 (56%), 480 þúsund árið 2014 (48%) og 180 þúsund árið 2009 (37%). Samkvæmt þessu nýttu 7,2 sinnum fleiri ferðamenn bílaleigubíla á Íslandi árið 2018 en árið 2010, 2,7 sinnum fleiri árið 2018 en 2014, 36% fleiri árið 2018 en 2016. Þetta kemur fram í rannsóknum sem fyrirtækið Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar vann en Rögnvaldur Guðmundsson er höfundur skýrslunnar. Yfir sumarmánuðina þrjá árið 2018 nýttu að jafnaði 67% bílaleigubíla, sama hlutfall gesta á jaðarmánuðunum apríl, maí og september, um 56% í mars og október en 44–48% ferðamanna yfir dimmustu vetrarmánuðina (janúar, febrúar, nóvember og desember).
Sé rýnt enn frekar í skýrsluna er áætlað að 15 sinnum fleiri erlendir ferðamenn hafi nýtt bílaleigubíla yfir helstu vetrarmánuðina árið 2018 (janúar, febrúar, nóvember, desember) en árið 2010, eða 253 þúsund manns á móti 17 þúsund. Þær benda einnig til þess að um 11 sinnum fleiri ferðamenn á jaðartímunum árið 2018 (mars, apríl, maí, sept. og okt.) hafi nýtt bílaleigubíla en ferðamenn sömu mánuði 2010, eða um 530 þúsund á móti um 48 þúsund. Hins vegar var fjölgunin mun minni, eða 4,5 föld, yfir helstu sumarmánuðina (júní, júlí og ágúst), um 518 þúsund sumarið 2018 á móti 115 þúsund sumarið 2010. Um 60% þeirra sem leigðu bílaleigubíl árið 2018 gerðu það utan sumarmánuðina þriggja. Það hlutfall var 59% árið 2016, 44% árið 2014 og 36% utan sumars árið 2010. Hin 60% erlendra
lengstur meðal gesta frá Suður-Evrópu (2.130 km) en síðan meðal gesta frá Asíu (1.870 km), Mið–Evrópu (1.840 km), utan helstu markaðssvæða (1.660 km), frá Benelux–löndunum (1.540 km) og Norður–Ameríku (1.310 km). Skemmstur var meðalakstur bílaleigubíla meðal Norðurlandabúa og Breta (1.120 km hjá báðum hópum) Edsneytisútgjöld 10,6 milljarðar Áætlað er að erlendir ferðamenn hafi ekið bíleigubílum alls um 660 milljónir km á Íslandi árið 2018 (22% meira en 2016). Það samsvarar meðalakstri um 56 þúsund heimilisbíla á miðað við 12 þúsund km akstur á ári. Í lok árs 2018 voru um 252 þúsund skráðir fólksbílar á landinu í eigu Íslendinga eða um 0,72 bíll á hvern íbúa. Samkvæmt þessu má ætla akstur erlendra ferðamanna á bílaleigubílum árið 2018 hafi verið um 22% af öllum einkaakstri Íslendinga það ár. Sé miðað við 8 lítra meðaleyðslu bíla á hverja 100 km og eldsneytisverð að jafnaði 200 kr. á lítra má lauslega slá á að eldsneytisútgjöld erlendra ferðamanna vegna aksturs á bílaleigubílum á Íslandi árið 2018 hafi numið um 10,6 milljörðum króna. Þar af fer yfir helmingur til ríkisins. Álag á vegakerfið jókst til muna
Af íbúum einstakra markaðssvæða nýttu ferðamenn frá Benelux– löndunum helst bílaleigubíla í ferð sinni á Íslandi árið 2018 (78%) en síðan gestir frá Suður-Evrópu (74%). Þá komu ferðamenn frá Mið–Evrópu (63%), Norður–Ameríku (63%), Asíu (62%), Norðurlöndunum (57%) og utan helstu markaðssvæða (52%). Gestir frá Bretlandseyjum ráku lestina (41%). 44
gesta sem nýttu sér bílaleigubíla árið 2018 óku að meðaltali um 1.562 km þann tíma sem þeir leigðu bílana. Heildarakstur á hvern leigusamning var að jafnaði lengstur í september, um 1.810 km, en stystur í janúar, um 960 km. Í skýrslunni kemur fram að áætlað er að meðalakstur á bílaleigubílum á hverja útleigu árið 2018 eftir búsetu hafi verið
Til samanburðar má nefna að áætlað er að árið 2016 hafi erlendir ferðamenn ekið bílaleigubílum á Íslandi um 540 milljónir km, 270 milljónir km árið 2014 og um 100 milljónir km árið 2010. Því er áætlað að álag bílaleigubíla á vegakerfið, þar sem erlendir ferðamenn voru við stýrið, hafi verið um 6,6 falt meira árið 2018 en árið 2010 og 2,4 falt meira en árið 2014. Áætlað er að gestir frá Norður–Ameríku hafi ekið mest á bílaleigubílunum árið 2018 eða um 201 milljónir km (30% af heildinni). Síðan komu Mið–Evrópubúar með 105 milljón km (16%) og ferðamenn frá Suður– Evrópu með 103 milljónir km (15,5%) og Asíu með 80 milljónir km (12%).
FERÐALAG UM EVRÓPU
SUMARIÐ 2019
eftir Stefán Ásgrímsson
Á eigin bíl — ekki bílaleigubíl Einhverjir eru efalítið þegar farnir að huga að því hvert og hvernig eigi að ferðast á næsta ári enda þótt sumarið sé rétt liðið og langt í það næsta. Góð ráð eru í tíma tekin og er sú raunin fyrir þann sem hér potar í lyklaborð. Hann er þegar byrjaður að hugsa um næsta ár og svigrúmið er fínt hjá manni sem búinn að vera á eftirlaunum á þriðja ár og stimpilklukkur og skilatímar að mestu hættir að þvælast fyrir. Svigrúmið er ágætt, möguleikarnir fjölbreyttir og heilsan fín, takk fyrir. Starfsfólk FÍB fær oft fyrirspurnir frá félagsmönnum sem vilja ferðast á eigin vegum um ferðalög erlendis, gistingu, bílaleigur og hvort vit sé í að ferðast erlendis á eigin bíl eða ekki. Í þessari frásögn verður sagt frá nokkuð nýlega afstöðnu ferðalagi eftirlaunahjóna frá Reykjavík um mið- og norðurhluta Evrópu og vonandi fá einhverjir gagnleg svör.
45
Bílaleigubíll eða eigin bíll? Satt að segja er alls ekki vitlaust að byrja strax að huga að næsta sumarferðalagi: Hvert skal halda? Hvenær? Hvernig? Upphaflega var það hugmynd okkar hjóna, undirritaðs og Sifjar Knudsen, að vera heima á Íslandi fram í lok júlí og fara þá til Evrópu um það leyti sem sumarleyfum Evrópubúa lýkur, líta inn hjá vinum sem búa í miðri álfunni, halda síðan til norðurs og heimsækja nokkra staði og gamla vini í Danmörku og taka um tvo mánuði í þetta. Þessar fyrirætlanir kröfðust farartækis og skyndiskoðun leiddi fljótt í ljós að fyrir karl sem orðinn er sjötugur er sá kostur að leigja bíl ekki eins hagstæður og þegar hann var á miðjum aldri. Við sjötugsaldur hækkar leigutaxtinn nefnilega auk þess sem allar tryggingar verða dýrari – stundum miklu dýrari. Þá fórum við að skoða möguleika á að nota eigin bíl, koma honum fram og til baka yfir hafið, leita tilboða og bera saman kostnaðinn við það annars vegar og hins vegar að leigja bílaleigubíl í 5–6 vikur. Sá samanburður leiddi í ljós að hagkvæmast var að senda bílinn með færeysku risa-bílaferjunni Mykines frá Þorlákshöfn til Rotterdam en í lok ferðar að keyra hann um borð í Norrönu í Hirtshals og sigla sjálfur með honum til Seyðisfjarðar. ,,Þú getur siglt þinn sjó,“ sagði frú Sif þá, ,,en ég flýg. Legg það ekki á mig að kveljast af sjóveiki í hauststormum á Norður-Atlantshafi.“ Ferðin hefst Niðurstaðan varð þessi: Bíllinn yrði sendur með Mykines frá Þorlákshöfn til Rotterdam en tveir farmiðar til Amsterdam voru keyptir með Icelandair til Amsterdam aðra leið. Þar sem enn voru allmargar vikur þar til ferðalagið hæfist var verðið hagstætt, sérstaklega á fluginu. Við keyrðum bílinn austur föstudagsmorguninn 2. ágúst og afhentum hann og lyklana að honum í vöruafgreiðslu Smyril Line í Þorlákshöfn og var heitið því að fá hann afhentan á tilteknum stað á risastóru svæði Rotterdamhafnar í Hollandi hinn 7. ágúst. Svolítill beygur var í okkur að skilja þarna við bílinn fullan af farangri en hann reyndist ástæðulaus. Allt stóðst eins og stafur á bók og bíllinn beið 46
eftir okkur á tilsettum stað og tíma. Ég var einungis beðinn um vegabréfið og afgreiðslumaðurinn í Rotterdam bar það saman við mynd af því í tölvunni sinni, benti svo út um glugga og sagði: „Þarna er bíllinn ykkar. Góða ferð.“ Sjálf flugum við til Amsterdam 6. ágúst með einungis eina handtösku og lítinn bakpoka meðferðis. Á Schiphol–flugvelli er lestarstöð og þar gengum við beint inn í hraðlestina til Rotterdam sem skilaði okkur til borgarinnar á hálftíma. Hótelið sem við höfðum pantað var rétt við aðaljárnbrautarstöðina . Þar gistum við síðan og tókum leigubíl morguninn eftir til fundar við bílinn okkar. Hvað kostaði fyrir bílinn út og heim? Leggurinn Þorlákshöfn – Rotterdam var 125.000,- ísl. kr. Leggurinn Hirtshals – Seyðisfjörður (bíll og bílstjóri í eins manns klefa) 58.485,- ísl kr. Verðið á heimferðinni var hagstætt vegna þess að þetta var fyrsta ferð skipsins Norrönu eftir að vetraráætlun tók gildi. Brugge/Bruges Samkvæmt hinni lauslegu ferðaáætlun okkar var hin gamla borg Brugge eða Bruges (eins og hún nefnist upp á frönsku) í Belgíu fyrsti áfangastaðurinn en þangað hafði hvorugt okkar komið áður. Við settumst inn í bílinn okkar þarna á höfninni í Rotterdam og byrjuðum á að slá inn í Garmin–leiðsögutækið heimilisfang Park Hotel í miðri Brugge þar sem við áttum pantaða tveggja nátta gistingu og innibílastæði og þangað beindi garmurinn okkur fyrirhafnarlaust. Brugge er ævagömul borg. Fornleifarannsóknir vitna um eldforna búsetu steinaldarmanna og síðan bronsaldar- og loks járnaldarfólks. Sú borg sem nú stendur, eða kjarni hennar öllu heldur, tók að myndast á tíma rómverska hershöfðingjans Júlíusar Sesars á fyrstu öld e.Kr, ekki síst til að verjast ágangi sjóræningja. Svo náðu Frankar völdum á svæðinu og víggirtu Brugge enn frekar til að verjast ásókn víkinga á níundu öld. Mikilvægi hennar sem verslunarborgar óx jafnt og þétt og fékk hún viðurkenningu sem borg Vindmyllur svipaðar þessari voru á ,,virkisbatteríunum” umhverfis Brugge fyrr á öldum. Þessi mun vera ein þeirra síðustu og hefur verið gerð upp og er eins og ný.
(kaupstaðarréttindi) samkvæmt skjali sem enn er til og er dagsett 27. júlí 1128. Brugge er ekki á ströndinni heldur nokkurn spöl inni á Flandersláglendinu en milli hennar og sjávar og einnig innan hennar voru og eru enn margir skurðir og rásir sem færar voru og eru bátum og litlum skipum miðalda. Sá stærsti og mikilvægasti þessara skurða eða siglingarása milli Brugge og sjávar nefndist ,,Gullna gáttin“ en þar réðu sjávarföll því hvort og hvenær hann væri fær skipum og hversu stórum. Loks kom að því upp úr 1050 að dýpi í þessari skiparás hafði minnkað mjög vegna botnfalls og siglingar skipa inn til Brugge gerðust illmögulegar uns hin ,,gullna gátt“ lokaðist á endanum. Þá gerðist það kraftaverk í miklum og sögufrægum stormi og sjávarflóðum árið 1134 að ný og enn lengri og dýpri skipafær rás opnaðist og hlaut hún nafnið Zwin. Eftir þessar hamfarir hófst mikill blómatími borgarinnar en auðvitað hélt botnfallið áfram og svo fór að þessi leið gerðist smám saman ógreiðfærari skipum í aldanna rás samhliða því að skipin stækkuðu, uns blómatími borgarinnar var að baki og Antwerpen yfirtók smám saman hlutverk Brugge í siglingum og verslun Flandershéraðs upp úr árinu 1500. Það var ekki fyrr en á 19. öld að Brugge tók að rísa aftur úr öskustónni og nú sem ferðamannaborg sem hún hefur verið það síðan í sívaxandi mæli. Árið 1907
Klaustrið Orval í samnefndum smábæ í Ardennafjöllum í Belgíu. Þarna framleiða munkar ágætan bjór og ekki síðri osta. Þarna var stofnað klaustur 1070 sem var lagt í rúst í frönsku byltingunni og munkarnir reknir brott. Klaustrið var endurreist árið 1926. Skoða má rústir gömlu bygginganna og skoða hinar nýju í gegn um glugga.
var reist sérstök hafnarborg Brugge úti við ströndina, en sú nefnist Zeebrugge. Þjóðverjar hertóku bæði hana og Brugge í fyrri heimsstyrjöldinni og komu sér upp kafbátalægi. Herir bandamanna frelsuðu báðar borgirnar að mestu óskemmdar hinn 19. okt. 1918. Aftur hernámu Þjóðverjar Brugge og Zeebrugge í síðari heimsstyrjöldinni og í lok hennar var það kanadískur her sem frelsaði þær nánast óskemmdar þann 12. september 1944. Upp úr 1970 og framundir þetta hefur höfnin í Zeebrugge verið endurbætt jafnt og þétt og er nú ein mikilvægasta höfnin á þessu svæði. Elsti hluti Brugge, sem er að mestu frá miðöldum, hefur frá 1965 stöðugt verið lagfærður og endurbyggður og í kjölfarið hefur áhugi ferðamanna fyrir borginni aukist jafnt og þétt og árlega sækja hana nú heim yfir átta milljónir ferðalanga. Borgin var útnefnd menningarborg Evrópu árið 2002 og elsti hluti hennar er á heimsminjaskrá UNESCO. Lúxemborg Föstudaginn 9. ágúst kvöddum við Brugge og eftir morgunmat ókum við upp úr bílakjallaranum undir Park Hotel og settum stefnuna á Lúxemborg þar sem við ætluðum að vera til enda ágústmánaðar, sem við og gerðum. Í landinu býr fjöldi Íslendinga og sumir hafa verið þar um áratugi, ekki síst þeir sem tengdust snemma flugi og flugrekstri, fyrst Loftleiða — fyrsta lággjaldafélagsins sem sögur fara af milli Evrópu og Bandaríkjanna — og síðan Cargolux flutningaflugfélagsins. Lúxemborg er inni í miðri Evrópu. Þaðan eru greiðar ferðamannaleiðir til allra átta og margra fagurra og áhugaverðra staða og svæða, ekki síst í Lúxemborg sjálfri og næsta nágrenni. Það er því mikil eftirsjá eftir því að beint flug skuli ekki fyrirfinnast milli Íslands og Lúxemborgar og hafi ekki gert lengi. Þar héldum við til í Ersange, litlu þorpi skammt frá landamærabænum Remich á bakka
Móselfljóts. Þar settumst við upp hjá Laufeyju Ármannsdóttur. Laufey er ættuð frá Selfossi en fluttist til Lúxemborgar fyrir um 35 árum með eiginmanni sínum, Hans Albert Knudsen, sem lést um aldur fram fyrir áratug. Hans Albert var bróðir Sifjar Knudsen konu minnar og ferðafélaga og því mágur minn. Frá Lúxemborg var lítið mál að gera út í margskonar leiðangra eins og þessa tíu kílómetra til Remich til að ganga þar um, skoða útimarkaðinn eða skreppa yfir brúna og inn í Þýskaland til að kaupa í matinn í mjög góðri Aldiverslun sem þar er skammt undan eða þá taka strætisvagninn upp í miðborg Lúxemborgar til að kíkja á mannlífið á Place d´Armes. Síðan komu af og til gamlir vinir og ættingjar í heimsókn og við fórum að heimsækja fólk og í bíltúra um nágrennið og til næstu ríkja jafnvel, enda þau svo sem ekki langt undan. Minnisstæð að þessu sinni var heimsókn í munkaklaustrið Orval í samnefndum smábæ og til Bastogne í Belgíu. Í Orval brugga munkar ágætan bjór og framleiða osta og við smökkuðum auðvitað á hvoru tveggja. Klaustrið í Orval var stofnað árið 1070 en lagt í rúst í frönsku byltingunni og endurreist 1926. Orval og Bastogne eru í belgísku Ardennafjöllunum norðvestur af Lúxembourg. Hart var barist um Bastogne undir lok síðari heimsstyrjaldar og þar er ágætt safn tileinkað þeim atburðum öllum og á aðaltorginu er meira að segja bandarískur skriðdreki sem stendur enn nokkurnveginn þar sem þýsk fallbyssukúla stöðvaði för hans rétt fyrir jólin 1944.
Til Danmerkur Sunnudagsmorguninn 1. september lauk Lúxemborgardvöl okkar þegar við héldum af stað til Danmerkur. Við ákváðum að taka því fremur rólega og keyra ekki í einni lotu til áfangastaðarins, sem var Helsingjaeyri, heldur gista einhvers staðar á leiðinni. Við pöntuðum ekki gistingu fyrirfram heldur ákváðum að byrja að líta í kring um okkur eftir gistingu upp úr klukkan fjögur, hvar svo sem við yrðum stödd þá. Það hlyti að vera óhætt þar eð sumarleyfistíminn var liðinn í Evrópu og engin sérstök eftirspurn eftir gistirými. Það reyndist hárrétt. Um fjögurleytið vorum við skammt utan við Bremen og komum þar að stóru Select– hóteli sem reyndist hafa nóg af tómum herbergjum og þar hlutum við náttstað og gengum til náða eftir göngutúr um nágrennið og kvöldverð á Kentucky Fried skyndibitastað. Morguninn eftir ókum við aftur út á hraðbrautina og héldum áfram til norðurs í átt til Puttgarden til að taka ferjuna þar yfir til Rødby á Lálandi. Þó nokkrar tafir reyndust vera vegna vegavinnu, sérstaklega við stórborgina Hamborg þar sem umferð var mikil en líka við Lýbiku (Lübeck) en við höfðum engar sérstakar áhyggjur af því þar sem við reiknuðum ekki með neinu slíku þegar til Danmerkur væri komið. Það fór þó á annan veg. Þegar við komum til Puttgarden fylltum við dísilolíu á bílinn þótt enn væri tankurinn tæplega hálfur og myndi hann nú fyllilega duga alla leið til Helsingjaeyrar. Fiatinn okkar reyndist samkvæmt tölvu bílsins eyða einungis 4,8 lítrum á hundraðið þrátt fyrir að 47
hraðinn á hraðbrautunum væri yfirleitt á bilinu 120—160 km/klst. og meðalhraði í akstri þar í kring um 135. Bíllinn reyndist einstaklega sparneytinn í allri ferðinni þrátt fyrir þokkalegt afl og viðbragðsflýti. Á venjulegum þjóðvegum og í þéttbýli reyndist hann eyða einungis 4,1 lítra að meðaltali. Það þýðir að þetta er sparneytnasti bíll sem við höfum nokkru sinni átt.
Þýsk og flæmsk áhrif voru mikil í Helsingjaeyri á miðöldum. Í þessu ævagamla húsi hefur einhverntíma verið þýsk vínstofa ef marka má áletrunina á skiltinu yfir dyrunum.
Áfram héldum við og renndum á endanum bílnum inn í röðina sem afgreiðslumaðurinn við ferjulægið í Puttgarden vísaði okkur í. Við þurftum ekki að bíða lengi eftir að komast um borð því að tæplega fimm mínútum síðar ókum við um borð og ferjan sigldi út úr höfninni í átt til Rødby-hafnar nokkrum mínútum síðar. Eftir um þriggja kortera siglingu ókum við svo frá borði inn á danska jörð, fyrst sem leið lá yfir Láland, yfir nýju Stórastraumsbrúna (Storstrømsbroen) inn á Sjáland í átt til Kaupmannahafnar en nánast alla þessa leið er nú hraðbraut. Við Ishøj, útborg Kaupmannahafnar, eru hraðbrautarmót og þar beygðum við inn á Helsingjaeyrarhraðbrautina sem liggur til norðurs framhjá nyrstu hverfum Kaupmannahafnar. Þar eru fjöldamargar innkeyrslur inn á hraðbrautina og þar sem við vorum þarna í lok vinnudags var umferð mjög mikil en einnig voru þarna miklar vegaframkvæmdir. Þarna lentum við í mestu töfum á öllu ferðalaginu þar sem það tók vel á annan klukkutíma að aka einungis um 30 km leið. Þetta minnti mann einna helst á Reykjavík. Til Helsingjaeyrar komumst við um kvöldmatarleytið.
Kaupmannahöfn og aðrir viðkomustaðir
Helsingør og nágrenni Margit Lange, vinkona okkar sem oft hefur léð okkur húsaskjól í Helsingjaeyri, hefur búið lengi á stórum gömlum herragarði, Esrum Gård, í útjaðri bæjarins. Hún, ásamt hópi , keypti eignina undir lok síðustu aldar og breytti hópurinn húsunum í ,,andelslejligheder“ sem er nokkuð svipað búsetu- og eignarform og Búseti hér. Margit er mjög virk í alls konar sjálfboða- og menningarstarfsemi, m.a. fyrir Rauða krossinn, Visens venner o.fl. Með henni mættum við m.a. í vikulegan kvöldmat sem bærinn stendur að og fram fer í gamalli tollbúð skammt frá höfninni. Þar geta allir mætt meðan 48
(ekki að ófyrirsynju) Hún var einstakur rithöfundur en einnig lista teiknari og listmálari. Hún dó árið 1962 og var lögð til hinstu hvílu undir stóru eikartré á landareign Rungstedlunds.
húsrúm leyfir, greitt algert lágmarksverð fyrir rétt dagsins, hitt kunninga, stofnað til nýrra kynna og spjallað saman. Meðan á borðhaldi stendur mæta skáld og/eða hljómlistarfólk til að fremja list sína. Þetta er ekki síst hugsað fyrir eldri borgara og þá sem orðnir eru einstæðingar og raunar hvern sem er, að fá smá hvatningu til að komast út meðal fólks í stað þess að einangrast. Gamla skipasmíðastöðin Helsingør Skibsværft, sem m.a. byggði varðskipið Þór (ef ég man rétt), er nú orðin að allsherjar menningarmiðstöð. Þar er bæjarbókasafnið nú til húsa og rekur þar blómlega, mjög fjölbreytta starfsemi. Í gömlu flotkvíunum er danska sjóferðasafnið nú. Það var áður í Krónborgarkastala en eftir að það flutti í flotkvíarnar er það orðið ótrúlega yfirgripsmikið og flott. Við skoðuðum safnið í um tvær klukkustundir en hefðum viljað eyða þar heilum degi. Frábært safn. Annað einstakt safn heimsóttum við en það var Rungstedlund, safn rithöfundarins Karenar Blixens. Hún fæddist þar 1885 og óx upp, en flutti ung nýgift kona til Afríku þar sem hún stofnaði og rak kaffiplantekru um 17 ára skeið. Um það fjallar bók hennar Jörð í Afríku og kvikmyndin Out of Africa með Meryl Streep, sem leikur Karen og Robert Redford sem leikur elskhuga hennar, Dennis Finch Hatton. Heimkomin frá Afríku settist hún aftur að í Rungstedlund og bjó þar til dauðadags. Amma mín, Sigurlaug Erlendsdóttir, hélt mikið upp á Karen Blixen og höfundarverk hennar Horft niður eftir Kaupmangaragötu. Rundetårn (Sívaliturn) t.v. og Regensen (Gamli garður) beint á móti honum.
Í Danmörku gerðum við víðreist. Við gistum allt upp í nokkra daga og niður í nokkra klukkutíma á stöðum eins og Helsingjaeyri, sem hér hefur verið nefnd, á Nørrebro/Østerbro í Kaupmannahöfn, Karrebæksminde á suðurhluta Sjálands, Árósum á Jótlandi, Præstø á Mið-austur Sjálandi, Maribo á Lálandi, Skagen og Hirtshals nyrst á Jótlandi. Á flestum þessara staða hittum við fyrir gamla vini og af þeim sker Hirtshals sig nokkuð úr því að þar býr talsverður hópur Íslendinga og hafa margir þeirra tengst fiskveiðum og útgerð þar og ílengst. Kaupmannahöfn, hin gamla höfuðborg Íslands, er alltaf góð að heimsækja. Þar áttum við hjónin heima um tæplega sex ára skeið á áttunda áratugnum og í byrjun þess níunda. Síðan þá hefur borgin vaxið mjög og teygst úr henni til allra átta og ný fjölmenn hverfi orðið til
Skoðunarferð um Kalundborg. Frá v: Suzanne Outzen, Sif Knudsen, Ulrik Outzen og bróðir hans Kim Outzen og Stefán Ásgrímsson.
þar sem áður voru hafnarsvæði eins og Sydhavnen, Nordhavnen og á Amager við brúarsporð Eyrarsundsbrúarinnar. Þetta síðastnefnda hverfi er nefnt Ørestaden. Borgin er þannig mjög breytt. Allur ,,hreyfanleiki“ var auðveldur í Kaupmannahöfn þegar við bjuggum þar en hann hefur fylgt mjög vel búsetuþróuninni og er trúlega enn auðveldari nú en þá. Neðanjarðarlestakerfið hefur bæst við og uppbygging þess var á lokametrunum einmitt þegar á heimsókn okkar stóð nú í haust. Kóngsins nýjatorg sem verið hefur sundurgrafið árum saman var óðast að taka á sig fyrri mynd og hefur neðanjarðarlestarstöðin undir torginu verið tekin í notkun og bæst við það net leiða og stöðva sem þegar voru komnar í gagnið. Kerfi almenningssamgangna samanstendur nú af neðanjarðarlestarkerfinu, gömlu S-lestunum og mjög þéttu strætisvagnaneti. Sama rafræna ferðakortið gildir fyrir öll þessi ferðanet í borginni og reyndar fyrir mest allar almannasamgöngur Danmerkur ef út í það er farið. Einkabíll í Kaupmannahöfn Í rauninni er einkabíll engin nauðsyn fyrir mjög stóran hluta íbúa Kaupmannahafnar vegna þess hve almannasamgangnanetin eru þéttriðin. Fyrir þá sem búa í fjölbýlishúsum í eldri hverfum borgarinnar, eins og Nørrebro, Østerbro, Vesterbro og Frederiksberg, er talsvert umstang og kostnaður við að eiga og gera út bíl. Það er alls ekki sjálfsagt að geta lagt honum nærri heimili sínu nema með miklum tilkostnaði, enda eru bílastæði mjög dýr, hvort heldur sem er á almennum svæðum, hvað þá svæðum í einkaeigu. Við gistum hjá æskuvinkonu Sifjar, Jette Sonne Ravn, sem býr þar sem hverfin Østerbro og Nørrebro mætast. Þar eru engin bílastæði sérstaklega frátekin fyrir íbúðirnar í húsasamstæðunni og hún á heldur ekki bíl. Nóg var þó af stæðum þarna en öll gjaldskyld. Við tókum því það ráð að fara inn á heimasíðu
Kaupmannahafnarborgar og þar fundum við gátt þar sem hægt var að skrá bílinn inn og kaupa með afslætti langtímastæði á mismunandi verðlögðum svæðum borgarinnar. Dýrasta svæðið, miðborgin, er merkt með rauðum lit, næst dýrasta með bláum og þar gistum við einmitt – á bláu svæði. Við skráðum bílinn og keyptum stöðuleyfi fyrir hann fyrir tímabilið 11. til 18. september, frekar en að fara í sjálfsala og kaupa þar rándýrt stöðuleyfi í hvert skipti sem við lögðum bílnum þarna. Það kostaði 492 krónur danskar sem er 9.150 íslenskar. Dýrt var það vissulega en skárra þó en að greiða kannski sekt eða fá bílinn dreginn burt. Stöðusektir og sektir fyrir hverskonar önnur umferðarbrot eru ofboðslega háar í Danmörku . Almennt um akstur í Evrópu Starfsfólk FÍB fær mjög oft og iðulega fyrirspurnir um hvernig sé að keyra bíl í Evrópu og hvort það sé yfirleitt óhætt og mörgum óar við að aka á hraðbrautum Þýskalands þar sem hraðinn getur sums staðar verið mikill. Þó er auðvelt að aka um Evrópu og að mörgu leyti auðveldara en á Íslandi. Reglufesta er meiri, fólk fylgir betur umferðarlögum og -reglum, allar umferðarmerkingar og upplýsingagjöf eru miklu betri og skýrari en hér og það er mark takandi á þeim. Séu framkvæmdir eða einhvers konar hindranir framundan eru ökumenn látnir vita með góðum og nægum fyrirvara og hvað og hvernig þeir skuli bregðast við, Bílastæðasjálfsali á rauðu svæði sem er miðbærinn. Þar er dýrast að leggja bíl, og jafnframt erfiðast að finna stæði.
t.d. með því að lækka hraða. Sé til dæmis þrenging framundan og tveimur eða fleiri akreinum fækkar niður í eina veit maður það talsvert löngu áður en komið er þar að. Þegar umferð er mikil og þétt fléttast farartækjaraðirnar auðveldlega saman. Sárafáir ryðjast áfram eða leitast við að koma í veg fyrir að aðrir geti skipt um akrein með því ,,að loka rýminu“ fyrir framan bíl sinn. Einna auðveldast finnst mér að aka í Þýskalandi, ekki síst á hraðbrautunum. Þótt hratt sé ekið á þeim fara flestallir út í hörgul eftir reglunum, hliðra til hver fyrir öðrum og gefa stefnuljós til að láta aðra vita um fyrirhuguð akreinaskipti og kveikja neyðarblikkljósin ef hemla þarf skyndilega. Með því lætur fólk aðra sem eftir koma vita og dregur þannig úr hættu á aftanákeyrslum og slysalíkum. Þetta er sérlega mikilvægt í þoku og dimmviðri. Þá getur maður nánast treyst því að ekki sé ekið fram úr manni hægra megin á hraðbrautunum, heldur alltaf og einungis vinstra megin. Frá þessu eru stöku sinnum undantekningar og þá eru það oftast bílar með erlend skráningarnúmer sem það gera. -SÁ
49
Viðtal: Þorvaldur Norðdahl Karlsson
„Verð í þessu meðan ég stend í lappirnar“ Við Suðurlandsveginn, nánar tiltekið í Hólmi við bæjarmörk höfuðborgarinnar, reka flestir vegfarendur augun í skilti sem á stendur „koppar til sölu“. Þar skammt frá er hjólkoppasala sem hefur verið starfrækt þar allar götur frá árinu 1965. Þorvaldur Norðdahl Karlsson, eins og hann heitir fullu nafn,i hefur alla tíð staðið þar vaktina og veitt viðskiptavinum góða þjónustu. Valdi eins og hann er oftast kallaður segist ekki hafa tölu á því hvað hann ætti marga hjólkoppa en sagði þá eflaust skipta hundruðum þúsunda. Mest væru þetta plastkoppar en þó væri hægt að finna einstaka dýrgripi innan um eins og t.d. hjólkopp af Chevrolet árgerð 1961, sem félagar hans í Fornbílaklúbbi Íslands hefðu gefið honum á sínum tíma. Stundum koma dagar þegar enginn kemur „Þessi hjólkoppaáhugi fór að rúlla þegar Hjálmar Hlöðversson fór að henda í mig koppum. Þetta var í kringum 1965 og má segja að þá hafi ekki verið aftur snúið. Í þessu er ég búinn að vera vakinn og sofinn. Nú er bara ekkert orðið að gera í þessum bransa, plastið að hverfa smám saman og flestir bílar komnir á álfelgur. Viðskiptin minnka stöðugt, einn og einn rekur nefið hér inn og stundum koma
50
dagar þegar enginn kemur. Ég er ekki sáttur með þessa þróun en við henni verður ekki spyrnt úr þessu, varla held ég það. Í gamla daga var stöðugur straumur fólks hingað alla daga en þá voru álfelgurnar ekki komnar til sögunnar,“ segir Valdi þegar FÍB-blaðið heimsótti hann á dögunum. Miklu meira fyrir gömlu bíla en þá nýju Valdi segist alla tíð hafa verið mikill bílaáhugamaður, miklu frekar þó um gömlu bílana en þá nýju. Þeir gömlu séu miklu meira spennandi og á bak við þá er saga. Það heilli hann mikið. Aðspurður hvað hann hafi átt marga bíla um ævina segir Valdi aldrei hafa átt bíl enda sé hann ekki með bílpróf. Það hafi ekki truflað sig að neinu ráði. Áhugi fyrir bílum hafi alltaf verið fyrir hendi og það skiptir máli. „Það eru alltaf einhverjir sem muna eftir mér og koma með koppa til mín. Þetta er hins vegar ekki eins og þetta var. Þeir hjá Vegagerðinni kom öðru hverju með koppa sem þeir finna í vinnu sinni víðs vegar um landið. Þeir hafa ekki gleymt mér og það finnst mér gott. Ég opna hérna klukkan 11 á morgnana og er með opið til sex á kvöldin. Stundum loka ég fyrr en reyni eftir fremsta megni að hafa góða þjónustu,“ sagði Valdi.
Þorvaldur Norðdahl Karlsson hjólkoppasali
Hann er spurður út í hvernig honum litist á þróunina í bílamálum almennt en núna eru rafbílar að ryðja sér til rúms. „Ég veit ekki hvað skal segja. Í dag geta bíleigendur ekki eins og áður gert við bílana sína sjálfir. Það er ekki góð þróun að mínu mati en svona er staðan. Rafbílar eru ekki að kitla mig og mér skilst að þeir séu ekki góðir í snjó. Ég er ekkert viss að ég myndi fá mér rafbíl ef ég ætti kost á því,“ sagði Valdi. Hann bætti þó við að margt gott væri í gangi og menn mættu samt ekki fara fram úr sér. Hann væri af gamla skólanum og gamlir bílar væru í mesta uppáhaldi hjá honum. Viðskiptavinir verða að láta sjá sig – annars er ég dauðadæmdur Þegar Valdi er spurður um hvað hann ætli að vera með hjólkoppasöluna starfrækta lengi segist hann ekkert geta sagt um það. „Ég get bara ekki svarað þessari spurningu. Ég er orðinn 67 ára gamall og ég veit satt best að segja ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég veit ekkert um hvort maður verði í þessu nokkur ár í viðbót. Mér hefur alltaf fundist þetta starf skemmtilegt, gaman að hitta fólk, veita góða þjónustu og hjálpa fólki í vanda. Það hefur gengið á ýmsu og margs er að minnast. Fyrst og fremst hefur starfið veitt mér ánægju og ætli það sé ekki ástæðan fyrir því hve ég er búinn að vera lengi í þessu. Ég er alla vega ekki ríkur af þessari vinnu en mér hefur alltaf fundist skipta mestu máli að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég hef kynnst mörgu góðu fólki og alltaf átt fasta viðskiptavini. Það sem skiptir líka máli að ég hef verið heilsuhraustur fram að þessu og kannski ástæðan fyrir því að ég er enn að sinna þessu. Viðskiptin fara dvínandi en það eru þau sem skipta máli og ráða framhaldinu. Viðskiptavinir vera að láta sjá sig, annars er ég dauðadæmdur. Ég sinni þessu kannski á meðan ég stend í lappirnar. Þegar ég læt af störfum fær maður meiri tíma til að hlusta á tónlist sem hefur alltaf verið stórt áhugamál hjá mér,“ sagði Valdi koppasali hress í bragði í viðtalinu við FÍB-blaðið.
FÍB-Aðstoð í Borgarnesi:
Ýmislegt hefur á dagana drifið Það er stundum í nógu að snúast hjá FÍB-aðstoðinni í Borgarnesi. Þar um slóðir fer í gegn mikil umferð allan ársins um hring, þá alveg sérstaklega yfir sumarmánuðina. Stór sumarbústaðarlönd eru þar í nágrenni og því gott að vita af aðstoðinni í Borgarnesi ef eitthvað kemur upp á. Hálfdán Þórisson og félagar í Bílabæ í Borgarnesi annast aðstoðina og eru boðnir og tilbúnir til þjónustu allan sólarhringinn. Bílabær hefur annast FÍB-aðstoðina í um 15 ár og hefur yfir að ráða góðum tækjabúnaði sem kemur að góðum notum í útköllum sem berast. Auk FÍBaðstoðarinnar rekur Hálfdán bíla- og dekkjaverkstæði.
Hálfdán Þórisson hjá Bílabæ
Hefur annast FÍB-Aðstoðina í Borgarnesi í 15 ár ,,Ég byrjaði í FÍB-aðstoðinni eftir að ég keypti fyrsta bílaflutningabílinn fyrir rétt tæpum 15 árum síðan. Þetta er eins og með öll störf, stundum er rólegt en síðan koma tímar sem mikið er að gera. Mér finnst nú orðið ekki vera mikið um þessi svokölluðu litlu útköll, start, bensín og dekkjaaðstoð. Þess heldur er meira í seinni tíð verið að nota bílaflutningabílinn og flytja bíla til skoðunar og viðgerðar á verkstæði. Með auknum ferðamannastraumi finnum við aukningu og það fer þá sérstaklega fram í gegnum bílaleigurnar,“ segir Hálfdán Þórisson í spjalli við FÍB-blaðið.
Hálfdán segir það mjög skemmtilegan tíma að hafa unnið með FÍB. Það hefur ýmislegt á dagana drifið. Hann hafi í sumar fengið að annast óvæntan flutning á bíll alla leið til Seyðisfjarðar. Óvænt flutningur á bíl í Norrænu ,,Þetta var skemmtilegur túr sem barst inn á borð til okkar. Það vildi þannig til að það bilaði húsbíll sem kominn var til ára sinna á Selfossi. Þar á svæðinu fékkst enginn til að flytja bílinn austur svo við vorum fengnir til verksins. Ég skutlaði bílnum í Norrænu og það er óhætt segja að þetta hafi verið tilbreyting frá öðrum störfum heima fyrir. Það er gefandi að geta komið fólki til aðstoðar í vanda og allir eru þakklátir fyrir hjálpina þegar upp er staðið,“ segir Hálfdán Þórisson.
51
Er sjúkrataska í þínum bíl? Verð frá aðeins 2100 kr.
www.FIB.is
Continental dekkin frábær viðbót Pústþjónustan BJB og Mótorstilling fékk fyrir skemmstu umboð fyrir sölu á Continental dekkjum hér á landi. Ragnar Davíð Segatta, framkvæmdastjóri fyrirtæksins, segir að gengið hefði verið frá samningum þess efnis fyrir skemmstu. Fyrsta sendingin hefði komið rétt fyrir dekkjaverðtíðina. Byrjað verði að selja ákveðnar stærðir en ekki var hægt að afgreiða allt í fyrstu sendingunni að sögn Ragnars. Þess má geta að Sólning hafði verið með umboðið með Continental dekkin í um 25 ár.
Fyrsta heimsþekkta dekkjamerkið sem við verðum með ,,Við erum mjög spenntir fyrir Continental dekkjunum sem eru heimsþekkt fyrir gæði og ennfremur að koma mjög vel út í dekkjakönnunum í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð og víða. Það verður gaman að sjá hvernig salan gengur nú í haust en þetta er fyrsta heimsþekkta dekkjamerkið sem við verðum með í sölu. Það breytir töluverðu og er frábær viðbót að fá þessi dekk til sölu. Continental eru mjög sterkir í erfiðum stærðum svo úrvalið 52
sem sem við bjóðum upp á er mun betra en áður. Við höfum líka bætt okkur í iðnaðardekkjum í gegnum Continetal sem er nýr markaður fyrir okkur sem við eigum eftir að bæta okkur enn frekar í þegar fram í sækir,“ segir Ragnar Þór í samtalinu við FÍB-blaðið. Það var í lok árs 2018 sem ákveðið var að sameina Pústþjónustu BJB og Mótorstillingu undir einu þaki í Hafnarfirði sem lauk með flutningi Mótorstillingar í Flatahraun 7 í janúar 2019. Í dag starfa sextán starfsmenn hjá sameinuðu félagi BJB og Mótorstillingar sem veitir mjög breytt vöru- og þjónustuúrval á sviði pústs og fylgihluta, varahluta og viðgerða fyrir allar gerir
bíla, auk þess að bjóða dekk og felgur frá heimsþekktum framleiðendum á borð við Vredestein, General, Vossen wheels og nú hefur Continental bæst við. Að auki sérhæfir BJB og Mótorstilling sig í varahlutum og viðgerðum fyrir ameríska bíla ásamt því að bjóða upp á ýmsar sérlausnir á dekkjum og tengdum vörum fyrir ýmis konar iðnað. Ragnar Þór segir fyrirtækið aldrei hafa átt svona mikið af dekkjum til sölu og hafi því aldrei verið eins vel undirbúið fyrir dekkjavertíð og nú. Fyrirtækið geti boðið alvöru vöru á samkeppnishæfu verði. Það sé að minnsta kosti markiðið fyrir veturinn.
Ný skoðunarstöð tekinn til starfa í Hafnarfirði Starfsemin þróuð áfram með óskir viðskiptavina að leiðarljósi Ný skoðunarstöð, Betri skoðun, var tekin í notkun í Stapahrauni í Hafnarfirði í byrjun ágúst. Félagarnir Grétar Þór Sæþórsson og Hörður Harðarson, eru skoðunarmenn og eigendur og reka fyrirtækið ásamt Reyni Þrastarsyni. Reynir segir að starfsmenn fyrirtækisins hafi langi starfað á þessum vettvangi og búi þar að leiðandi yfir góðri reynslu sem komi sér afar vel þegar þegar
skoðunarstöðin var sett á laggirnar. Markmiðið er að bjóða upp á góða þjónustu við bifreiðaeigendur og hafa viðskiptavinir tekið opnunni fagnandi og lofar framhaldið góðu. Tvær skoðunarbrautir eru í skoðunarstöðinni, sem er búin öllum nýjasta tækjabúnaði sem prýðir starfsemi sem þessa. Handtökin voru mörg við að koma húsnæðinu í núverandi gott stand.
Með lægstu verð í öllum tegundum ,,Móttökurnar hafa verið góðar en við getum skoðað allar gerðir af bílum upp að 7,5 tonnum. Við erum núna í faggildingarferli og búið að fara í úttekt og við erum að klára þær úrbætur sem óskað er eftir. Við erum að vonast eftir því að fá fullgildingu mjög fljótlega þegar búið verður að fara yfir gögnin sem við sendum til Hugverkastofu. Við erum nú þegar samkeppnishæfir við aðra og erum með lægstu verð á öllum tegundum skoðana. Við erum ennfremur
að bjóða lægri verð á millistærðum á bílum. Við getum hins vegar ekki skoðað vörubíla og stærri ökutæki. Bjóðum hins vegar skoðanir á mótorhjólum, kerrum, hjólhýsum og tjaldvögnum og öll farartækum undir 7.5 tonnum. Við erum nú þegar með tækjabúnað sem krafist er en það tók sinn tíma að fá hann afhentan en allur búnaðar kom ekki á sama tíma til landsins. Það tekur bara tíma að koma starfsemi sem þessari á fót. Við munum bara þróa starfsemina áfram með óskir viðskiptavina að leiðarljósi,“ segir Reynir Þrastarson.
Frá vinstri: Hörður Harðarson tæknistjóri, skoðunarmaður, Reynir Þrastarson, Grétar Þór Sæþórsson skoðunarmaður og Halldóra Eiríksdóttir afgreiðsla
53
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Vantar
NÝJA lykla? Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Húslyklar Lyklakerfi Sílendrar
Láshús og fylgihlutir Peningaskápar Hurðapumpur
Skemmuvegi 4, Kóp. . www.las.is . s: 510 8888 . Opið alla virka daga 8-17
54
ALTERNATORAR & STARTARAR Í FÓLKSBÍLA, JEPPA, VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
✔ Bíldshöfði 14, 110 Reykjavík ✔ Sími: 553 1244 ✔ ljosboginn@ljosboginn.is ✔ www.ljosboginn.is
Á að aka erlendis? Ekki gleyma alþjóðlega ökuskírteininu. Afgreitt samdægurs. Nánari upplýsingar á FÍB.is
Notaðu FÍB afsláttinn! Með því að sýna FÍB skírteinið hefur þú aðgang að fjölda afslátta um land allt.
Nánar á FÍB.is 55
Varahlutir í bílinn Ve r ks m i ðjuá by rg ð á þí n u m b í l e r t r yg g ð m e ð vottuðum va rahlu tu m f rá St i lli n g u
Smursíur
Rafgeymar
Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar
Tímareimar og vatnsdælur
Kúplingar
Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir
56
Allt fyrir bílinn Sti lli ng hf. | Sími 520 8 000 | www.stilling. is | stilling@stilli ng. i s