2.tbl. 2019
F É L A G
Í S L E N S K R A
B I F R E I Ð A E I G E N D A
RAFBÍLA
VÆÐINGIN
Á ÍSLANDI
ALLT UM
DRÁTTARBEISLI
AÐ VELJA
RÉTTU DEKKIN 1
Mosfellsbæ
Skúlagötu
Skeifunni
Öskjuhlíð
Bíldshöfða Sprengisandi
Kópavogsbraut
BYKO Breidd
Búðakór
Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi) Kaplakrika
Birgðastöð Hafnarfjarðarhöfn
Egilsstöðum Fagradalsbraut 15
Stykkishólmi
Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi
VELDU ÞÍNA STÖÐ! Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika Hveragerði Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ
ATLANTSOLÍA
Reykjanesbæ - Njarðvík Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum - Fagradalsbr.15
FÍB
FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 15 krónu afslátt á valinni Atlantsolíustöð.
2
Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.
MEIRA FYRIR
FÍB FÉLAGA
HJÁ ATLANTSOLÍU 15 kr
afsláttur
EF KEYPT ER 150 L EÐA MEIRA
EF KEYPT ER 150 L EÐA MINNA
12+3 KR 10+3 KR
3
40%
afsláttur
Nú er ódýrara að hlaða bílinn því heimili í viðskiptum við ON fá 40% afslátt í hraðhleðslum okkar um allt land með ON lyklinum. Kynntu þér málið á www.on.is
4
ORKA NÁTTÚRUNNAR Þjónustusími allan sólarhringinn: 591 2700 · www.on.is
Vegtollar eru aukin skattheimta á fjölskyldurnar í landinu Nýlega skilaði starfshópur á vegum Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skýrslu um nýjar leiðir til að fjármagna vegaframkvæmdir. Formaður starfshópsins er Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins en hann var jafnframt formaður í starfshópi Jóns Gunnarssonar, fyrrum samgönguráðherra, um álagningu
ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson Höfundar efnis Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Runólfur Ólafsson Prófarkalestur Snorri G. Bergsson Ljósmyndir Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Umbrot/Auglýsingar Björn Kristjánsson bjorn@fib.is Prentun Prentsmiðjan Oddi UPPLAG 18.000 FÍB-blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 8.220.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is
vegtolla. Þennan nýja starfshóp skipuðu, auk Eyjólfs, embættismenn og sérfræðingar úr viðeigandi ráðuneytum, frá Vegagerðinni og aðstoðarmenn forsætis-, fjármálaog samgönguráðherra. Nefndin er eingöngu skipuð opinberum starfs-mönnum fyrir utan Eyjólf sem jafnframt er byggingaverkfræðingur og fyrrum forstjóri Mannvits. Fulltrúum FÍB var ekki boðið að hitta starfshópinn.
Brú yfir Ölfusá, brú yfir Hornafjarðarfljót, Axarveg, tvöföldun Hvalfjarðar-ganga og Sundabraut. Þá er einnig búið að leggja fram áform um frumvarp til laga um breytingu á vegalögum til að tryggja heimildir til innheimtu vegtolla. Þetta leggur ríkisstjórnin fram þrátt fyrir ábendingar starfshópsins um að ríkisframkvæmdir og -fjármögnun sé hagkvæmasti kosturinn. Áformin eru lögð fram á miðju sumri og aðeins er gert ráð fyrir tveggja vikna umsagnarfresti.
Í upphafsorðum skýrslunnar segir að álag á vegi landsins hafi aukist mikið síðustu árin m.a. vegna fjölgunar ferðamanna. Á sama tíma hafi framlög til vegagerðar verið óvenju lág sem hlutfall af landsframleiðslu en það aftur á móti kallar á aukið viðhald og nýframkvæmdir. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir samdrátt til vegagerðar hafa skattar ríkissjóðs af bílum og eldsneyti verið að aukast á liðnum árum.
Það er langur vegur að halda að umræðum um vegtolla sé lokið. FÍB hefur áhyggjur af áformum um nýja skatta á fjölskyldurnar í landinu ofan á þá 80 milljarða króna sem bíleigendur borga þegar í formi skatta og gjalda á bíla og umferð. Vegtollar eru aukin skattbyrði og bætast við þær greiðslur sem umferðin skilar nú þegar. Engin áform hafa verið kynnt um að lækka aðra skattheimtu af bílum og umferð. Einkabíllinn er eina samgönguformið fyrir almenning sem skilar meiri tekjum í ríkissjóð en sem nemur kostnaði.
Starfshópurinn leggur til breytta forgangsröðun skattfjár til að fjármagna vegaframkvæmdir og mögulega gjaldtöku (vegtolla) að framkvæmdum loknum. Fjallað er sérstaklega um tæknilausnir víða um heim til að afla nýrra skatta með vegtollum. Í skýrslunni kemur fram að ríkisframkvæmdir séu ódýrasti kosturinn vegna lægri fjármagnskostnaðar. Komi til innheimtu vegtolla er það mat starfshópsins að nýta eigi nýjustu tækni við innheimtuna og miða við að hlutfall innheimtukostnaðar fari ekki yfir 10%. Fram kemur að tryggja þurfi fullnægjandi lagaheimildir verði farið í sértæka gjaldtöku. Þess má geta að ofan á vegtoll með innheimtukostnaði leggst 11% virðisaukaskattur. Ríkisstjórnin hefur þegar lagt fram í Samráðsgáttinni áform um lagasetningu sem heimilar stjórnvöldum til að fela einkaaðilum fjármögnun, framkvæmdir og veghald á tilteknum köflum þjóðvega. Þar eru lagðar til fimm framkvæmdir:
Vegtollar fela í sér lýðræðishalla. Enginn þeirra sem nú talar fyrir vegtollum kynnti þann ásetning sinn fyrir síðustu kosningar. Kjósendur fengu ekki tækifæri til að taka afstöðu til slíkra hugmynda. Vegtollar mismuna vegfarendum eftir búsetu og ferðatilgangi og leggjast þyngst á þá sem hafa minna aflögu. Ávinningur af búsetu á ódýrari svæðum fer fyrir lítið. Það er undarleg pólitík að ætla að innheimta sérstaka vegtolla vegna öryggisúrbóta og eðlilegrar uppbyggingar á megin samgönguæðum þjóðfélagsins með tilheyrandi samfélagslegri arðsemi og fækkun slysa. Umferðin skilar nú þegar nægum tekjum til að standa undir þessum útgjöldum.
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri 5
Vanda þarf til verka á öllum sviðum Það hefur varla farið framhjá neinum að hafin eru orkuskipti í samgöngum. Rafbíllar og tengitvinnbílar ryðja sér til rúms og tækni við smíði þeirra fleytir fram með hverju ári sem líður. Margir sem íhuga bílakaup í dag staldra við og skoða vandlega hvort runninn sé upp sá tími að vert sé að festa kaup á fyrsta rafbílnum. Rafbílavæðingin er hafin hér á landi fyrir nokkru síðan og nú eru hátt í tíu þúsund rafbílar og tengitvinnbílar í umferð á Íslandi. Í þessu sambandi má nefna að bílafloti landsmanna telur alls 240 þúsund bíla svo að enn munar miklu. Enn munu nokkrir áratugir líða þangað til bílaflotinn verður að fullu knúinn rafmagni. Meðalaldur fólksbíla á Íslandi er um 12 ár. Það þýðir að nýir bílar, sem fluttir verða til landsins frá og með 2018, verða að jafnaði hluti af bílaflotanum sem telur í kolefnisbókhaldi Íslands árið 2030. Því er afar mikilvægt að nýta ívilnanir og skatta til að tryggja bæði orkuskipti og bætta eldsneytisnýtni í flotanum næstu 12 árin. Setja verður góða samvinnu og skipulagningu á oddinn Öllum má vera ljóst að þessum bílum á eftir að fjölga jafnt og þétt á næstumárum. Innviðir allir verða betri og öll þjónusta sem bílar af þessari gerð kalla eftir. Enn er samt langt í land. Einhverjir sáu rafbílavæðinguna ganga hraðar en raun ber vitni. Undirbúningsvinna er tímafrek, kostnaðarsöm og best að vanda til verks á öllum sviðum frá upphafi. Setja verður góða samvinnu og skipulagningu á oddinn í þessu risavaxna verkefni. Ísland er afar heppilegur staður fyrir rafvæddar samgöngur. Öll raforka hér er svo gott sem kolefnislaus, vega6
lengdir eru stuttar fyrir yfirgnæfandi hluta landsmanna og loftslag er heppilegt fyrir langtímaendingu rafhlaða. Í dag eru rúmlega 2.000 hreinir rafbílar í flotanum og hafa engar stórvægilegar tæknihindranir komið upp. Frá og með 2020 ætti tegundafjöldi rafbíla, drægni og innviðir að vera komnir á þann stað að vera ekki lengur tæknileg hindrun fyrir innleiðingu. Í samantekt sem unnin var fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið kemur fram að til einföldunar má skipta rafbílakostnaði neytenda í tvo hluta, innkaupakostnað og rekstrarkostnað. Innkaupakostnaður rafbíla er enn talsvert hærri en sambærilegra sprengihreyfilsbíla og því eru ívilnanir nauðsynlegar til að hvetja ökumenn til að skipta yfir.
stefnir hraðbyri yfir 50% á næstu árum. Hugarfarsbreyting á sér stað Þegar öllu er á botninn hvolft eru mjög spennandi tímar framundan í rafbílavæðingu. Hugarfarsbreyting á sér stað því að umhverfið skiptir okkur öll máli. Sérfræðingar í þessum málum leggja áherslu á að við verðum að hugsa til umhverfismála og þeirra skuldbindinga sem við höfum undirgengist varðandi mengun og minnkun kolefnislosunar. Rafbílar eru stór þáttur í þessari umræðu en þeir bæði hagkvæmari á margan hátt og margfalt ódýrari í rekstri. Jón Kristján Sigurðsson Ritstjóri
Rafbílar eru í dag undanþegnir virðisaukaskatti og er það nauðsynleg ívilnun til að jafna innkaupsverð sem er klárlega mikilvægasti áhrifaþáttur á ákvarðanatöku kaupenda. Afsláttur af skattinum þýðir vissulega eftirgjöf af tekjum ríkissjóðs en allt útlit er fyrir að þörf fyrir slíkt verði aðeins tímabundin og framleiðslukostnaður rafbíla muni innan skamms nálgast hefðbundna bíla. Virðisaukaskattsívilnanir verða því að öllum líkindum ekki nauðsynlegar mjög lengi.
Efnisyfirlit
Noregur er allsráðandi í innleiðingu rafbíla og í dag eru yfir 250 þúsund rafbílar í landinu eða fleiri en allur fólksbílafloti Íslands. Noregur er síður en svo heppilegri staður fyrir rafbíla en Ísland og þar eru vegalengdir og dreifing byggðar talsvert stærri áskorun en hér. Það er því engin tæknileg fyrirstaða fyrir því að para Norðmenn og fylgja fordæmi þeirra í rafbílavæðingu. Markaðshlutdeild rafbíla í Noregi hefur verið um 45% fyrstu sex mánuði ársins 2018 og
38 Reynsluakstur Kia e-Niro
8 Markviss uppbygging innviða 12 Sögulögur atburður í orkusögunni 15 Skýrsla um umferðarslys 2018 21 Ný umferðarlög samþykkt 24 Dráttarbeisli 31 Hleðsuaðferðir rafbíla 34 Reynsluakstur Hyundai Kona 40 Allt um dekk 43 Sumardekkjakönnun 46 Viðtal við Ævar Friðriksson 48 Umhirða bílsins 50 Sara Björg svarar spurningum 52 Viðtal við Árna Val Viggósson 26 FÍB aðstoð á Akureyri
Jarðgöng og lágbrú áhugaverðir kostir Í skýrslu starfshóps um Sundabraut sem hefur verið skilað til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra eru tveir valkostir sagðir koma til greina fyrir fyrirhugaða Sundabraut. Annars vegar jarðgöng yfir í Gufunes og hins vegar lágbrú sem þverar hafnarsvæðið við Kleppsvík. Hvorki botngöng né hábrú yfir Kleppsvík voru taldir fýsilegir kostir. Í skýrslunni eru nokkrir valkostir vegnir og metnir. Starfshópurinn fór yfir gögn um framkvæmdina og lét gera kostnaðaráætlanir og umferðarspár en útfærsla á þverun Kleppsvíkur hefur verið sérstaklega til umræðu. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að bygging Sundabrautar hafi jafnan verið rædd sem ákjósanlegt samvinnuverkefni þar sem einkaaðilar tækju að sér fjármögnun framkvæmda. Í slíku samstarfi yrði samið um framkvæmdina við félag sem sér um uppbyggingu, rekstur og viðhald mannvirkja, og innheimtir síðan gjöld af vegfarendum til að endurheimta kostnað. Bent er á að svipað fyrirkomulag við gerð Hvalfjarðarganga hafi reynst vel en þar hafi vegfarendur haft val um aðra leið án greiðslu með því að aka fyrir Hvalfjörð. Starfshópurinn fór yfir öll fyrirliggjandi gögn um framkvæmdina og lét uppfæra kostnaðaráætlanir og
umferðaspár. Erfiðasti og dýrasti hluti mögulegrar Sundabrautar er þverun Kleppsvíkur. Í Kleppsvík er nú umfangsmikil starfsemi Sundahafnar, sem er megingátt Íslands í vöruflutningum á sjó. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil en um er að ræða þjóðveg sem liggja mun frá Reykjavík yfir sundin til Kjalarness. Í skýrslunni segir jafnframt að lagning Sundabrautar hafi jafnan verið rædd sem ákjósanlegt samvinnuverkefni þar sem einkaaðilar tækju að sér fjármögnun framkvæmda.
Við viljum hafa pláss fyrir allt Lífið tekur breytingum með tímanum. Börnin stækka, þeim fjölgar, áhugamálin breytast, ferðalögin lengjast. Það sem ekki breytist er að við þurfum pláss fyrir alla og allt sem þeim fylgir. Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun bilið í bílakaupunum. Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
Lægra lántökugjald við kaup á vistvænum bílum
7
HVÍ TA HÚSI Ð / SÍ A
50% afsláttur af lántökugjaldi á vistvænum bílum Ekkert lántökugjald við kaup á rafbíl
Markviss uppbygging innviða ve Hraðhleðslustöðvum við þjóðveginn verður fjölgað verulega og blásið verður til átaks með ferðaþjónustunni til að stuðla að orkuskiptum hjá bílaleigum sem hafa víðtæk áhrif á samsetningu bílaflota landsmanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi þriggja ráðherra ríkisstjórnarinnar þar sem kynnt voru næstu skref varðandi orkuskipti í samgöngum á Íslandi. Verkefnin byggja á tillögum starfshóps sem umhverfis- og auðlindaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipuðu í byrjun árs og var falið að móta tillögur um aðgerðir til að hraða orkuskiptum hér á landi, í samræmi við aðgerðaáætlanir um loftslagsmál og orkuskipti. Tilkynnt var í dag um ráðstöfun 450 milljóna króna vegna orkuskipta í samgöngum árin 2019–2020 en samkvæmt fjármálaáætlun er áætlað að verja 1,5 milljarði króna
8
til orkuskipta á fimm ára tímabili. Þriðjungur þeirrar losunar gróðurhúsalofttegunda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda kemur frá vegasamgöngum. Stærsta einstaka aðgerðin sem mögulegt er að ráðast í til að mæta skuldbindingum Íslands er því að draga úr þessari losun með breyttum ferðavenjum og orkuskiptum í vegasamgöngum. Rafvæðing fólksbílaflotans mun skila mestu í orkuskiptunum en gert er ráð fyrir að hún geti skilað allt að 250.000 tonna árlegum samdrætti í losun. Orkuskiptin gangi hratt fyrir sig „Við verðum að gjörbreyta ferðavenjum okkar og skipta út mengandi jarðefnaeldsneyti fyrir umhverfisvæna orkugjafa. Ísland er nú í öðru sæti hvað varðar nýskráningar rafbíla og þær aðgerðir sem hér eru kynntar skipta verulegu máli til að tryggja að orkuskipti hér á landi gangi hratt og örugglega fyrir sig. Við höfum allt sem þarf til að vera í fararbroddi í heiminum í orkuskiptum í samgöngum,“ segir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Við erum hér að kynna aðgerðir um áframhaldandi átak í orkuskiptum og markvissa uppbyggingu innviða. Meðal annars er lögð sérstök áhersla á orkuskipti í ferðaþjónustu í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar. Í því felast fjölmörg tækifæri og við eigum að stuðla að því að ferðamenn geti ferðast um landið með umhverfisvænum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. „Með rafbílavæðingu nýtum við hreina og ódýra innlenda orku í stað mengandi innflutts eldsneytis. Það skiptir máli að fólki standi til boða að reka og hlaða rafbíl, óháð búsetu. Ég fagna markvissri uppbyggingu um allt land, sem styður við þá þróun,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Formaður starfshópsins var Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs, en auk hans sátu í hópnum fulltrúar úr atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, umhverfisog auðlinda-ráðuneytinu, samgönguog sveitastjórnarráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Hópnum var einungis ætlað að taka fyrir orkuskipti í samgöngum en ekki breyttar ferðavenjur fólks og eflingu almenningssamgangna en unnið er að því annars staðar í stjórnkerfinu.
vegna orkuskipta í samgöngum Helstu aðgerðir varðandi orkuskipti: Rafbílum fjölgar hratt hér á landi og Ísland er nú í öðru sæti í heiminum á eftir Noregi hvað varðar hlutfall rafbíla af fjölda nýskráðra bifreiða. Mikilvægt er að koma í veg fyrir að flöskuhálsar myndist á fjölförnum stöðum og tryggja hindrunarlausar ferðir milli landshluta. Kallað verður eftir umsóknum um fjárfestingarstyrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva á lykilstöðum við þjóðvegi landsins, með áherslu á næstu kynslóð hleðslustöðva sem bjóða upp á mun styttri hleðslutíma en núverandi stöðvar gera. Til úthlutunar til þessa verkefnis eru samtals 200 milljónir króna og hefur Orkusjóði verið falið að sjá um úthlutun styrkja til átaksverkefnisins. Vegna mótframlags umsækjenda má áætla að heildarupphæð uppbyggingarinnar verði að lágmarki 400 milljónir króna.
Hleðslumöguleikar við gististaði – eftirmarkaður rafbíla Ráðist verður í átaksverkefni um að fjölga hleðslumöguleikum við gististaði vítt og breitt um landið. Með því er liðkað fyrir orkuskiptum hjá bílaleigum en áhrif innkaupa bílaleiga á samsetningu bílaflotans hér á landi eru veruleg þar sem bílaleigubílar eru tæpur helmingur allra nýskráðra bifreiða á Íslandi. Áhrifin á losun gróðurhúsalofttegunda eru tvíþætt: Annars vegar vegna aksturs ferðamanna sem er að minnsta kosti fjórðungur af öllum einkaakstri á landinu og hins vegar þegar fyrrverandi bílaleigubílar verða að heimilisbílum landsmanna á eftirmarkaði. Gististöðum og hótelum um land allt býðst að sækja um fjárfestingarstyrki í gegnum Orkusjóð til að setja upp hleðslustöðvar svo að gestir geti hlaðið þar rafbíla yfir nótt. Til úthlutunar eru samtals 50 milljónir króna. Vegna mótframlags umsækjenda má áætla að heildarfjárhæðin verði að lágmarki 100 milljónir króna og hleðslustöðvum við gististaði fjölgi um allt að 500 vegna þessa. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar.
Almennar aðgerðir og aðrir orkugjafar Hafinn er undirbúningur í félagsmálaráðuneytinu að því að breyta lögum um fjöleignarhús með það að leiðarljósi að liðka fyrir rafbílavæðingu. Auk ofangreindra verkefna hefur starfshópurinn sett fram áherslur varðandi orkuskipti í almenningssamgöngum og afgreiðslu á metani, vetni og innlendu íblöndunareldsneyti, auk rafvæðingar hafna. Leitað hefur verið til Grænu orkunnar um að móta frekari tillögur þar að lútandi sem gert verður í samráði við hlutaðeigandi haghafa og fagaðila. Þá verður 200 milljónum króna varið til margvíslegra verkefna í orkuskiptum árið 2020, byggt á frekari greiningum.
9
Rafbílavæðing er hagkvæm fyrir þjóðarbúið Rafbílavæðing hefur í heildina jákvæð áhrif þegar litið er til lengri tíma annars vegar og helstu þjóðhagslegra stærða og fjárhagslegra hagsmuna neytenda hins vegar. Auk þess skilar hún umtalsverðum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta eru helstu niðurstöður nýrrar greiningar sem Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands unnu fyrir Samorku, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Grænu orkuna, Íslenska nýorku og Orkusetrið. Í greiningunni var stuðst við fjórar mismunandi sviðsmyndir sem hver og ein studdist við ólíkar stjórnvaldsaðgerðir sem greiða fyrir rafbílavæðingu. Einnig var lagt mat á hvaða leið myndi flýta mest fyrir rafbílavæðingu og hver þeirra væri hagkvæmust.
10
Rafbílavæðingu kostnaður til skemmri tíma Þá kemur fram að niðurstöður leiða í ljós að hlutfall hreinna rafmagnsbifreiða (e. BEV: battery-electric vehicles) og tengiltvinnbifreiða (e. PHEV: plug-in-hybrid electric vehicles) af bílaflotanum mun aukast á næstu árum. Hversu mikil aukning verður er mjög háð ákvörðunum stjórnvalda og aðstæðum á markaði. Áhrif á afkomu ríkissjóðs eru háðar þeim leiðum og stjórntækjum sem verða notaðar til að hafa áhrif aì orkuskipti í samgöngum. Rafbílavæðingu fylgir kostnaður til skemmri tíma en með réttri notkun á stjórntækjum má stýra hvar sá kostnaður lendir.
Rafbílavæðing ein og sér dugir þó ekki til þess að standa við skuldbindingar okkar í Parísarsamningnum, þ.e.a.s. verði þær að við þurfum að draga úr útblæstri um 40% miðað við árið 1990. Til viðbótar þurfa að koma til fleiri aðgerðir. Þá segir enn fremur að rafbílavæðing sé hagkvæm fyrir þjóðina til langs tíma til viðbótar við þann umtalsverða árangur sem hún skilar í samdrætti á útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Rafbílavæðing hefur einnig önnur jákvæð óbein áhrif sem snerta þjóðarhag, svo sem minni loftmengun og aukið orkuöryggi. Áhrifin verða jafnframt jákvæðari eftir því sem rafbílavæðingin ristir dýpra. Þegar þessir þættir eru teknir til greina verða þjóðhagsleg áhrif rafbílavæðingar ótvírætt jákvæð.
Uppbygging innviða í borginni fyrir rafbílaeigendur Undirritað hefur verið samkomulag milli Reykjavíkurborgar, Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Veitna um stórfellda uppbyggingu innviða í borginni fyrir rafbílaeigendur. Verkefnin, sem byrjað verður á nú í ár og munu standa í þrjú ár, fela í sér að komið verður upp hleðslum fyrir rafbíla við 30 starfsstöðvar Reykjavíkurborgar. Næstu þrjú árin verða 20 hleðslur settar upp árlega eftir ábendingar frá íbúum og einnig munu Reykjavíkurborg og OR stofna sjóð sem úthlutað verður úr til húsfélaga fjölbýlishúsa sem hafa sett upp hleðslubúnað fyrir rafbíla á lóðum sínum. Þrír þættir samkomulagsins •
30 hleðslur við starfsstöðvar Reykjavíkurborgar
•
60 hleðslur á landi borgarinnar víðsvegar um borgina
•
120 milljóna króna sjóður til að styrkja húsfélög fjölbýlishúsa til að koma upp hleðslubúnaði
Í fyrsta lagi verða byggðir upp innviðir fyrir hleðslubúnað rafbíla á 30 fyrirfram ákveðnum stöðum við starfsstöðvar Reykjavíkurborgar eða í næsta nágrenni þeirra. Þeir sjást á meðfylgjandi uppdrætti. Í tilkynningu kemur fram að á allt að 60 stöðum að auki – 20 á ári næstu þrjú árin – verða lagðar lagnir að hleðslubúnaði og hann settur upp á borgarlandi með það að markmiði að þjóna íbúum sem ekki hafa bílastæði á eigin lóð. Óskað verður eftir tillögum íbúa um staðsetningar. Reykjavíkurborg og Veitur munu velja þær til samræmis við fjölda íbúa og önnur hagkvæmnisjónarmið. Loks munu OR og Reykjavíkurborg leggja árlega 20 milljónir króna í sjóð hvor aðili í þrjú ár til að úthluta styrkjum til húsfélaga íbúðarhúsa sem koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla. Auglýst verður eftir umsóknum og úthlutunarreglur verða kynntar betur. OR og Veitur eru reiðubúin til samsvarandi samstarfs við önnur sveitarfélög á starfssvæði þeirra.
Útboð á hleðslubúnaði Hleðslustæðin munu verða kyrfilega merkt og eingöngu ætluð rafbílum. Uppsetning og rekstur sjálfs hleðslubúnaðarins, sem settur verður upp fyrir almenning, verða boðin út. Gert er ráð fyrir að hleðslan verði seld á þessum bílastæðum. Reykjavíkurborg leggur til stæðin, Veitur heimtaugar og OR fé í styrktarsjóð. Gert er ráð fyrir að hámarksstyrkur til húsfélags nemi 1,5 milljónum króna og verði að hámarki 2/3-hlutar kostnaðar við að koma hleðslum upp við fjölbýlishúsið. Samkomulagið felur í sér að þriggja manna samstarfsnefnd samningsaðila haldi utan um verkefnið.
11
Sögulegur atburður í orkusögu landsins Bensínstöð Orkunnar norðan við Miklubraut breytist í dag í fyrstu fjölorkustöð landsins þar sem ökumenn og aðrir notendur munu, geta keypt nær alla endurnýjanlega orkugjafa auk hefðbundins jarðefnaeldsneytis sem framleiddir eru til samgangna í landinu. Um sögulegan atburð var að ræða í orkusögu landsins því að þetta var í fyrsta skipti að slíkt er gert á sömu áfyllingarstöðinni. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, flutti ávarp við þetta tækifæri og tók stöðina formlega í notkun með því að fylla á þrjá vistvæna bíla með innlendum, endurnýjanlegum orkugjöfum. Metangasið kemur frá urðunarstað SORPU í Álfsnesi, hraðhleðsla fyrir rafmagns- og tengitvinnbíla frá Orku náttúrunnar og þá verður hægt að fá vetni frá Orku náttúrunnar sem framleitt er með rafgreiningu í Hellisheiðarvirkjun.
Fjölorkustöðin við Miklubraut er samstarfsverkefni sem hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og Evrópusambandið styrkti um tvær milljónir evra. Verkefnisstjórn og þróun hefur verið í höndum Íslenskrar NýOrku en Skeljungur á og rekur stöðina.
Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku, sagði við opnunina einstakt væri að fá að taka þátt í opnun stöðvar sem býður alla vistvæna kosti á Íslandi. „Orkan er að taka risaskref í samfélagslegri ábyrgð og ég er sannfærður um að þessa dags verður minnst í orkusögu þjóðarinnar. Nú er mikilvægt að fyrirtæki og opinberir aðilar fylgi fordæmi Orkunnar og setji sér markmið um að kaupa aðeins bíla sem nota vistvænt eldsneyti þannig að eftirspurn aukist og hægt verði að byggja upp enn frekari innviði,“ sagði Jón Björn. Hendrik Egholm, þáverandi forstjóri Skeljungs, sagði nú vera tíma breytinga í samgöngum sem í felast bæði tækifæri og áskoranir. “Við höfum mótað skýra stefnu og ætlum að vera leiðandi í þeim breytingum, vinna þær í sátt við samfélagið og með opnun fjölorkustöðvarinnar á Miklubraut sýnum við það í verki. Orkan, sem orkufélag framtíðarinnar, fagnar því þessum áfanga í sögu félagsins.”
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson ásamt Berglindi Rán Ólafsdóttur framkvæmdarstjóra Orku náttúrunnar
12
Hraðhleðslustöðvum fjölgar jafnt og þétt Hraðhleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla hefur fjölgað mjög frá því að Orka náttúrunnar setti upp fyrstu stöðina 2014 og fjórum árum síðar gátu rafbílaeigendur keyrt hringveginn án þess að hafa áhyggjur af rafmagnsleysi. Uppbygging á landsbyggðinni stendur enn yfir og er fjöldi hraðhleðslustöðva áætlaður á komandi ári. Þá var nýlega tilkynnt að Reykjavíkurborg hygðist koma upp 90 hraðhleðslustöðvum á næstu þremur árum. Árið 2019 má gera ráð fyrir að u.þ.b. 100 hraðhleðslustöðvar verði aðgengilegar fyrir almenning víðsvegar um landið, þó að flestar hleðslustöðvar verði á höfuðborgarsvæðinu.
LÉTTSKOÐUN AÐALSKOÐUNAR Léttskoðun er fyrir þá sem eru að kaupa sér nýjan bíl og vilja ganga úr skugga um að bíllinn sé í góðu standi áður en hann er keyptur.
Orka náttúrunnar og Ísorka hafa farið fremst í flokki á uppsetningu hraðhleðslustöðva og eru gögn frá þeim notuð til þess að áætla fjölda stöðva sem almenningur hefur aðgang að. Þá er inni í tölunum átakið „Hleðsla í hlaði“ en þannig bjóða, samkvæmt nýjustu gögnum, ellefu sveitabæir á landsbyggðinni upp á hraðhleðslu. Engin opinber gögn eru til um fjölda hraðhlaða.
ATRIÐI YFIRFARIN Í LÉTTSKOÐUN: ∙Stýrisbúnaður ∙Hjólabúnaður ∙Aflrás ∙Hemlabúnaður
Léttskoðun gildir eingöngu fyrir bíla tíu ára og yngri og fyrir bíla undir sex tonnum að heildarþyngd. Engar bókanir, þú mætir á staðinn og við skoðum bílinn.
13
Nýtt og endurbætt slysakort Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið stóð fyrir morgunverðarfundi nýlega um umferðaröryggi. Af því tilefni opnaði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguog sveitarstjórnarráðherra, nýtt og endurbætt slysa-kort á vef Samgöngustofu en á kortinu eru upplýsingar um öll umferðarslys sem orðið hafa á Íslandi frá 2007 til ársloka 2018. Upplýsingar í þessum gagnagrunni eru nýttar til að fækka slysum, efla forvarnir og forgangsraða framkvæmdum. Fram kemur í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu að á fundinum hafi skýrsla Samgöngustofu um umferðarslys árið 2018 verið kynnt. Þar ber hæst að alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunarog fíkniefnaaksturs fjölgar og sömuleiðis vegna framanákeyrslu. Á nokkrum öðrum sviðum fækkaði slysum miðað við næstu tvö ár á undan. Á fundinum var einnig flutt erindi um það hvernig Vegagerðin nýtir upplýsingar um umferðarslys til að forgangsraða framkvæmdum og loks um umferðaröryggisáætlun Reykjavíkur og aðgerðir hennar undir yfirskriftinni „Öryggi óháð ferðamáta“.
14
Ráðherra taldi afar þýðingarmikið að nýta upplýsingar og gögn um umferðarslys til að forða slysum og bæta umferðaröryggi. Árlega væri umferðaröryggisáætlun uppfærð á grundvelli slysaskráninga. „Á aðeins fimm árum hefur umferðin á þjóðvegunum aukist um ríflega 40%. Umferðarslys og óhöpp eru talin kosta yfir 50 milljarða á ári, og er þá ekki talinn sá sársauki og sorg sem slysunum fylgja. Því er til mikils að vinna að draga úr slysum með öllum tiltækum ráðum. Því legg ég áherslu á að mannslíf og heilsa verði ávallt höfð í öndvegi og öryggi metið framar en ferðatími í forgangsröðun.“ Sigurður ráðherra sagði að ríkisstjórnin hafi verið mynduð um framsýn markmið við uppbyggingu á innviðum. Því verði ríflega 120 milljörðum króna varið til nauðsynlegra framkvæmda í vegakerfinu á næstu fimm árum og er það veruleg hækkun frá því sem var. Meðal aðgerða, sem brýnt væri að koma í framkvæmd, er að aðskilja akstursstefnur á umferðarþyngstu þjóðvegum. „Nefna má að umferðarslysum á Reykjanesbrautinni hefur fækkað um 40% frá því að akstursstefnur voru aðskildar.“
Skýrsla um umferðarslys árið 2018 Árlega eru teknar saman skýrslur um umferðarslys en þær eru notaðar til að marka stefnu í baráttunni fyrir bættu umferðaröryggi. Skýrsla fyrir árið 2018 var kynnt ítarlega á morgunverðarfundinum. Í heildina náðust mun fleiri markmið um umferðaröryggi en árið áður sem einnig var betra en árið 2016. Árið 2016 var á hinn bóginn sérstaklega slæmt ár í umferðinni en samanburður við árin þar á undan telst ekki sérlega hagstæður fyrir 2018. Fram kemur í tilkynningu á vefsíðu samgönguráðuneytisins að meðal þess sem hæst ber í skýrslunni er að alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs fjölgar og sömuleiðis vegna framanákeyrslu. Á hinn bóginn fækkar alvarlegum slysum og banaslysum sem ungir ökumenn (17-20 ára) eiga aðild að. Einnig fækkar þeim lítillega sem slasast alvarlega eða látast sem eru ýmist á bifhjóli, reiðhjóli eða gangandi í umferðinni. Slysum á erlendum ferðamönnum fækkaði þegar á heildina er litið eftir mikla aukningu þrjú árin á undan.
Umferðarslys á Íslandi
2018
Helstu atriði úr slysaskýrslu 2018 • • • • • • • • • •
Alls slösuðust og létust 1289 manns í umferðinni árið 2018. Þar af slösuðust 1088 lítillega, 183 alvarlega en 18 létust. Flest slys og óhöpp í umferðinni urðu á virkum dögum á milli kl. 16 og 17. Banaslysin átján urðu í fimmtán slysum. Af þeim sem létust á árinu voru sex konur og tólf karlmenn. Af þeim sem létust voru níu Íslendingar, sex erlendir ferðamenn og þrír erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis og létust því jafnmargir Íslendingar og erlendir ríkisborgarar. Tveir létust í þéttbýli en sextán í dreifbýli. Af fimmtán banaslysum áttu karlmenn sök að máli í fjórtán tilfellum. Ellefu af átján látnum voru 36 ára eða yngri. Fjöldi látinna var 18 manns og eru nú komin fjögur ár í röð þar sem fjöldi látinna er á bilinu 16–18 en árin á undan létust iðulega færri.
Flest slys og óhöpp urðu á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. (Frekar er fjallað um hættulega staði annars staðar í blaðinu).
15
Flest slys og óhöpp verða á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar Flest slys og óhöpp verða á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þar á eftir eru annars vegar tvö önnur stór gatnamót við Miklubraut (Háaleitisbraut og Grensásvegur) og hins vegar þrjú gatnamót eða hringtorg í Hafnarfirði: Hringtorg Flatahraun/ Fjarðarhraun/Bæjarhraun, hringtorg Reykjanesbraut/ Lækjargata og gatnamót við Kaplakrika (Reykjanesbraut/ Fjarðarhraun). Þetta kemur fram í skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi árið 2018. Þegar kemur að slysum með meiðslum eru gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar einnig með flest slys. Þar á eftir eru svo gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, Miklubrautar og Grensásvegar og Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Slæma vegkafla utanbæjar má annars vegar skoða út frá því hvar flest slys verða (m.v. lengd kaflans) og hins vegar hvar hæsta slysatíðnin er, þ.e. hvar flest slys verða m.v. umferðarmagn (og lengd kaflans). Í skýrslunni kemur fram að versti kafli landsins er stuttur kafli norðan Hvalfjarðarganga að hringtorgi ef litið er til þeirra staða þar sem flest slys og óhöpp . Sá kafli er aðeins 480 mtr. en á honum áttu sér stað 23 slys og óhöpp síðustu fimm árin. Lendir þessi kafli því efst á blaði bæði vegna þess hve mörg atvik eiga sér stað en einnig vegna
þess hve stuttur hann er. Á eftir honum kemur svo annar stuttur kafli, kaflinn frá Leifsstöð að hringtorgi. Sé skoðað hvar flest slys með meiðslum eiga sér stað m.v. lengd vegarkafla sjáum við framangreinda kaflann frá Leifsstöð að hringtorgi. Flestir verstu kaflarnir hvað þetta varðar eru vegir út frá höfuðborgarsvæðinu, enda er þar mest umferð. Þegar skoðuð er slysatíðni, þ.e. hvar flest slys verða m.v. ekna kílómetra, fást allt aðrir vegkaflar en þegar aðeins skoðaður slysafjöldi. Flest slys og óhöpp m.v. ekna kílómetra (sem er fjöldi bíla sinnum lengd vegkafla) verða á Hróarstunguvegi á Fljótsdalshéraði. Þar urðu 27 slys og óhöpp á fimm árum á 9,2 kílómetra löngum kafla þar sem 74 bílar aka um að jafnaði yfir árið. Næstu vegir þar á eftir hvað þetta varðar samkvæmt skýrslu Samgöngustofu eru Vattarnesvegur sunnan Reyðarfjarðar og Jökuldalsvegur á Fljótsdalshéraði. Því eru þrír verstu vegkaflarnir hvað þetta varðar allir á Austurlandi. Hvað varðar flest slys með meiðslum m.v. ekna kílómetra þá er Heydalsvegur (þjóðvegur 55, nyrðri helmingur hans) sá versti. Þar á eftir er 5 kílómetra kafli Norðfjarðarmegin við Norðfjarðargöng og vegurinn um Öxi.
16
Flest slys verða við gatnamótum Miklubrautar, Reykjanesbrautar og Fjarðarhrauns
Árið 2018 var að mörgu leyti gott í umferðinni Árið 2018 var að mörgu leyti gott í umferðinni á Íslandi. Flestir mælikvarðar batna frá fyrra ári sem var aftur að mestu leyti betra en árið 2016. Árið 2016 var hins vegar sérlega slæmt í umferðinni og samanburður við árin þar á undan er ekki sérlega hagstæður fyrir árið 2018. Fjöldi látinna árið 2018 var 18 manns og eru nú komin fjögur ár í röð þar sem fjöldi látinna er 16-18 en árin þar á undan var fjöldi látinna iðulega minni. Þetta kemur fram í skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi 2018. Þó skal því haldið til haga að síðustu tíu ár (2009-2018) létust 133 í umferðinni á Íslandi en árin tíu þar á undan (1999-2008) létust 229. Því má segja að 96 mannslíf hafi bjargast á þeim tíma eða u.þ.b. tíu á ári. Fjöldi látinna hækkar úr 16 í 18 á milli ára en að öðru leyti sjáum við fækkun hvað varðar fjölda slasaðra. Alvarlega slösuðum fækkar úr 189 í 183 (3%) og sjáum við því örlitla fækkun í fjölda
alvarlega slasaðra og látinna samtals eða úr 205 í 201. Lítið slösuðum fækkar einnig, úr 1182 í 1088. Í skýrslunni kemur fram að heildarfjöldi slasaðra minnkar úr 1387 í 1289 á milli ára eða um 7%. Við samanburð við önnur lönd þarf ætíð að notast við fjölda látinna m.v. höfðatölu. Fjöldi slysa og slasaðra er ekki raunhæfur samanburður í dag og skýrist það bæði af mismunandi skilgreiningum á meiðslum og mismunandi umfangi skráningar (og þá mismikilli vanskráningu). Samanburður við hin Norðurlöndin sýnir að árangur Íslands er ekki góður þetta árið. Við erum með flesta látna m.v. höfðatölu fjórða árið í röð en fyrir árið 2015 gerðist það síðast árið 2006.
hérlendis og létust því jafnmargir Íslendingar og erlendir ríkisborgarar. Einn karlmaður lést vegna ölvunaraksturs en enginn lést í umferðinni undir áhrifum fíkniefna. Af fimmtán banaslysum áttu karlmenn sök að máli í fjórtán tilfellum. Tveir létust í þéttbýli en sextán í dreifbýli. 11 af 18 látnum voru 36 ára eða yngri. Tólf létust í fólksbílum, fjórir í sendibílum (þ.á.m. tveir í svokölluðum „camper“), einn í hópferðabíl og einn á sexhjóli, að því fram kemur í skýrslunni.
Árið 2018 létust 18 einstaklingar í 15 slysum, 12 karlmenn og 6 konur eða stúlkur. Af þessum 18 sem létust voru 9 Íslendingar, 6 erlendir ferðamenn og 3 erlendir ríkisborgarar búsettir
FIA leggur áherslu á öryggi ofar öllu Við upphaf Formúlu-1 tímabilsins sem hófst um miðjan maí gáfu FIA, Alþjóðasamtök bifreiðaeigenda, út stuttmynd þar sem samtökin leggja áherslu á umferðaröryggi. Umferðarslysum fjölgar nokkuð en samkvæmt nýlegum tölum láta 1,4 milljónir manna lífið í umferðarslysum í heiminum á ári hverju. Umferðarslys eru algengustu dánarorsök fólks á aldrinum 5-29 ára. Myndin leggur lykiláherslu á helstu öryggisatriði. Fáir þekkja eins vel hversu hættulegur akstur getur verið en ökumenn í Formúlu-1. Því þótti vel við hæfi að fá þá til að ýta þessari mynd úr vör.
og virði alltaf hraðatakmarkanir. Við útgáfu myndarinnar þakkaði forseti FIA, Jean Todt, ökumönnum Formúlu-1 fyrir samvinnuna.
Í myndinni er lögð áhersla á þrjá þætti: að ökumaður haldi fullri athygli í akstri, noti ekki símann í akstri
„Umferðarslys eru á meðal helstu áskorana okkar í dag. Þessi stuttmynd mun vekja almenning til umhugsunar um mikilvægi umferðaröryggis og
stuðla að enn meiri vitundarvakningu. Líf ykkar er í eigin höndum. Virðið reglurnar,“ sagði Jean Todt. Samhliða útgáfu myndarinnar mun FIA hrinda af stað herferð á samfélagsmiðlum og er almenningur hvattur til að dreifa skilaboðunum. 17
Bensínstöðvum í borginni fækkar um helming á næstu árum Borgarráð hefur samþykkt meginlínur og samningsmarkmið í viðræðum við olíufélögin í því skyni að fækka bensínstöðvum í borginni um helming. Í stað bensínstöðva komi íbúða-uppbygging, hverfisverslanir eða önnur starfsemi á lóðunum. Alger einhugur var í borgarstjórn um málið.
Fram kom að skilgreindir hafa verið hvatar fyrir olíufélögin til að hraða þessari umbreytingu í græna átt í samvinnu við borgina. Loftslagsáætlun borgarinnar gerir ráð fyrir að stöðvunum verði fækkað um helming fyrir árið 2030 en nú brá svo við að borgarráði leist svo vel á uppleggið að það sameinaðist um að herða á markmiðinu og miða frekar við árið 2025. FÍB hefur oft vakið athygli hversu þétt net eldsneytisstöðva er á
Símanotkun undir stýri fer minnkandi Í byrjun þessa árs var hrundið af stað fjórðu herferðinni í nafni „Höldum fókus“ átaksins. Tilgangurinn var nú sem fyrr að varpa ljósi á þá miklu hættu sem stafar af notkun snjallsíma í akstri. Að þessu sinni stóðu Samgöngustofa, Sjóvá og Strætó að baki herferðinni. Farin var nýstárleg leið þar sem herferðin tengdist Instagram-reikningi fólks og þannig komst það inn í einstaka upplifun sem tengdist áhugasviði viðkomandi. Tjarnargatan vann tæknina og hugmyndina að baki þessu en í samstarfi við Google er notuð gervigreind til að sérsníða sögulínu að lífstíl hvers og eins. Í könnun sem Gallup gerði einum mánuði frá því að herferðin fór af stað kom fram að hún næði, líkt og áður, mikilli athygli fólks og 7 af hverjum 10 sem sáu herferðina töldu sig knúna til að hætta alfarið, mikið eða að einhverju leyti símanotkun undir stýri. 18
Í könnuninni kemur einnig fram að 71% landsmanna hafi, á rúmum mánuði, orðið var við herferðina og 43% mjög oft eða oft. 56% þeirra sem sáu auglýsinguna töldu boðskapinn komast vel eða mjög vel til skila. Í viðhorfskönnun, sem Gallup gerði í lok síðasta árs fyrir Samgöngustofu, kemur fram að 53% ökumanna segja farsímanotkun annarra ökumanna valda sér mikilli truflun. Allir aðspurðir töldu hættulegt að skrifa texta eða skilaboð á símann og 87% töldu notkun farsíma án handfrjáls búnaðar hættulega. Því er ljóst hve hættulega hegðun fólk telur þetta vera en það kemur einnig fram í könnuninni að margir þeir sem telja hegðunina hættulega nota sjálfir farsíma á þann hátt sem um ræðir. Þótt þessi niðurstaða sé vísir að góðu er ljóst að ekki má sofna á verðinum með að fræða ökumenn og minna á þá miklu hættu sem stafar af akstri „undir áhrifum“ farsíma.
höfuðborgarsvæðinu og hversu óhagkvæmt það hljóti að vera. Olíufélögin og sömuleiðis borgaryfirvöld og sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu gætu auðveldlega stýrt þéttleikanum olíufélögin eftir hagrænum forsendum og yfirvöld með skipulagsaðgerðum og með t.d. með lóðaúthlutun eða því að endurúthluta lóðum vannýttra stöðva. Í dag eru um 44 bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu eða ein bensínstöð sé á hverja 2.700 íbúa en til samanburðar má geta að ein bensínstöð er á hverja tíu þúsund íbúa í Lundúnum. Bensínstöðvum hefur almennt fækkað hratt í Evrópu á síðustu árum.
Eitt atriði er þvert á þessa þróun en það er að fólk virðist í auknu mæli nota símann til að stjórna tónlist á meðan á akstri stendur. Mikilvægt er að hafa í huga að mörg alvarleg slys eru rakin til farsímanotkunar ökumanns en hún getur aldrei talist réttlætanleg eða þess virði að viðhafa í ljósi alvarlegra afleiðinga.
Kínverjar kaupa rafbíla meira en áður Sala á raf- og tvinnbílum í Kína hefur aukist gífurlega á síðustu árum. Árin 2013-2017 jókst sala á þeim gríðarlega eða um 2000%. Þessi mikla aukning er rakin til aðgerða kínverska yfirvalda sem hvatt hafa þá sem eru í bílahugleiðingum að íhuga alvarlega kaup á raf- og tvinnbílum vegna umhverfissjónarmiða. Mengun er hvergi meiri en í Kína og leita stjórnvöld allra ráða til að minnka hana. Til að ýta enn fremur undir sölu hefur framboð á raf- og tvinnbílum aukist verulega. Valmöguleikarnir eru meiri, verðið hefur lækkað og því hefur hópur áhugasamra, sem hefur ráð á þessu kaupum, stækkað.
Vöxtur í sölu raf- og tvinnbíla hefur verið öllu stöðugri í Bandaríkjunum en árið 2017 nam salan 1,1% af sölu nýrra bíla. Heildarsala raf- og tvinnbíla í Kína var um 550 þúsund bílar árið 2017 en á sama tíma seldust um 200 þúsund bílar sömu gerðar í Bandaríkjunum. Að framansögðu er ljóst að þegar kemur að sölu á rafog tvinnbílum er skiptingin mjög ólík á milli þessara landa. Í Kína eru til að mynda seldir fjórfalt fleiri rafbílar en tvinnbílar. Í Bandaríkjunum í skiptingin nánast jöfn.
Eyjafjörður
Vaðlaheiðargöng Skráðu bílinn á veggjald.is áður en þú ferð í fríið Þar er einnig að finna allar upplýsingar um veggjöld í göngin Einfaldast og þægilegast er að skrá ökutæki og greiðslukort á heimasíðuna veggjald.is og aka síðan í gegnum göngin. Veggjaldið skuldfærist af greiðslukorti í hvert skipti sem keyrt er um göngin. Skráðum notendum bjóðast afsláttarkjör. Því fleiri ferðir sem eru keyptar, þeim mun lægri upphæð greiðist fyrir hverja ferð.
Akureyri
Akureyri Seyðisfjörður
Reykjavík
19
Meðalaldur íslenska bílaflotans er 12,4 ár Bílafloti landsins hefur yngst undanfarin ár eða allt þar til á síðasta ári. Undir lok árs 2018 var meðalaldur fólksbílaflotans 12,4 ár en þá er miðað við alla skráða fólksbíla, hvort sem þeir eru í notkun eða ekki. Árið 2017 var meðalaldur allra skráðra fólksbifreiða 12,03 ár. Meðal bíla í hópi hóp-, sendiog vörubifreiða jókst meðaldurinn einnig, fór úr 13,27 árum í 14,43 ár. Af þeim bifreiðum sem í notkun eru var meðalaldurinn 10,6 ár við lok árs 2018. Mesta fjölgunin var í flokki bifreiða yfir 20 ára og voru 40.594 bílar í þeim aldurshópi og nam hlutfallsleg aukning frá fyrra ári 24%. Í yngsta aldursflokknum, bílum á bilinu 0-5 ára, nam aukningin 12,5% á milli ára og voru 89.900 bílar í þeim aldursflokki. Engin tölfræði er til um stöðuna í Evrópu fyrir árið 2018 en nýjustu upplýsingar ná til ársins 2016. Það ár var meðalaldur fólksbíla um 11 ár á meðan meðalaldur atvinnubifreiða var 12 ár. Meðaldur evrópska bílaflotans hefur hækkað um rétt tæpt ár frá 2013. Íslenski fólksbílaflotinn er því talsvert yngri í samanburði við upplýsingar í gögnum ársins 2016. Meðaldur íslenskra fólksbíla í notkun var 9,91 ár við árslok 2018.
Þrír dagar fóru í umferðartafir Í greiningu sem Samtök iðnaðarins gerðu í tilefni af mótun samgönguáætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið árin 2019–2033 kemur fram að samtökin áætla að þjóðhagslegur kostnaður umferðatafa á höfuðborgarsvæðinu árið 2017 hafi verið hærri en 15 milljarðar króna. Þar segir enn fremur að atvinnulífið hafi glatað um sex milljörðum vegna tapaðs vinnutíma og almenningur um níu milljörðum vegna skemmri frítíma. 19 þúsund klukkustundum sóað í umferðartafir Samtökin áætla jafnframt að 19 þúsund klukkustundum hafi verið sóað í umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu á hverjum virkum degi árið 2017. Það gerir um sex milljónir á klst. á hverju ári miðað við algengar forsendur um meðalfjölda farþega í bíl. Yfirfært á hvern borgarbúa jafngildir það því að þrír dagar hafi farið í umferðartafir á árinu. Samtök iðnaðarins leggja áherslu á bætta samkeppnishæfni Íslands en því betri sem hún er verða meiri verðmæti til og lífsgæðin þar með aukast. Meginstoðir eru menntun, innviðir, nýsköpun og starfsumhverfi.
20
Ný umferðarlög samþykkt Alþingi hefur samþykkt frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra til nýrra umferðarlaga með öllum greiddum atkvæðum. Ráðherrann segir á Facebook-síðu sinni að framkvæmdavaldið hafi unnið að nýjum umferðarlögum síðastliðin tólf ár og að þau hafi verið lögð fram fjórum sinnum á Alþingi án þess að hljóta brautargengi. „Þess vegna er mjög gleðilegt að sjá það gerast að allur þingheimur sé sammála því að bæta umferðaröryggi með eins afgerandi hætti og atkvæðagreiðslan bar með sér,“ segir Sigurður Ingi á Facebook-síðu sinni eftir að nýju lögin höfðu verið samþykkt. Á meðal þeirra breytinga sem lögin fela í sér er að hjálmskylda á reiðhjóli verður til 16 ára aldurs í stað 15 ára áður. Þá var samþykkt að hliðarbil skal vera að lágmarki 1,5 metri þegar bifreið er ekið fram úr
reiðhjóli eða léttu bifhjóli. Sveitarfélögum og Vegagerðinni verður jafnframt heimilt að takmarka eða banna umferð um stundarsakir á tilteknum vegum eða svæðum þegar mengun fer yfir heilsuverndarmörk eða þegar hætta er talin á að slíkt geti gerst. Í nýjum umferðarlögum er þannig kveðið á um eftirfarandi: „Takmarkanir á umferð vegna mengunar frá ökutækjum geta t.d. falist í breytingum á hámarkshraða, takmörkun á umferð stærri ökutækja eða takmörkun almennrar umferðar með því að heimila tilteknum bifreiðum akstur á ákveðnum svæðum eftir oddatölu/jafnri endatölu eða sambærilegum endabókstaf skráningarmerkja.“ Leyfilegt magn vínanda í blóði ökumanns minnkar einnig með nýjum umferðarlögum en það fer úr 0,5 prósenti í 0,2 prósent.
21
PROCAR Samgöngustofa ætlar ekki að svipta bílaleiguna Procar starfsleyfi Samgöngustofa ætlar ekki að svipta bílaleiguna Procar starfsleyfi. Tillögur fyrirtækisins að úrbótum voru taldar fullnægjandi. Lögreglurannsókn á málinu er komin til héraðssaksóknara vegna umfangs. Fréttaskýringaþátturinn „Kveikur“ upplýsti um umfangsmikið svindl bílaleigunnar Procar í febrúar á þessu ári. Gögn sýndu að átt hefði verið við kílómetrastöðu bíla áður en þeir voru seldir á að minnsta kosti fimm ára tímabili. Procar gekkst við brotunum og hét því að bjóða þeim bætur sem voru blekktir. Síðan málið kom upp hefur viðbragðsleysi vegna þess verið gagnrýnt en það heyrir undir Samgöngustofu. Í fréttum RÚV í lok apríl sagði Þórólfur Árnason, forstjóri stofnunarinnar að reyndust brotin jafn alvarleg og þau litu út fyrir að vera, yrði gripið til leyfissviptingar. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur ítrekað komið því á framfæri við lögreglu og Samgöngustofu að málið þoli ekki frekari tafir til að verja rannsóknarhagsmuni, koma verði í veg fyrir samkeppnisbrot og vernda neytendur. Í grein sem Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, skrifaði í síðasta FÍB-blaði sagði hann að Procar-svindlið hafi dregið úr trausti neytenda í viðskiptum með notuð ökutæki og skaðað neytendur og fyrirtæki fjárhagslega. Hann sagði enn fremur að á markaðnum eru ökutæki með skráninguna „bílaleiga“ í eigenda- eða umráðaferli mun lakari og verðminni vara en áður. Fram hefur komið að Samgöngustofa upplýsti forsvarsmenn Procar um niðurstöðu sína í málinu í byrjun maí. Gestur Gunnarsson, lögmaður hjá Draupni sem fer með mál Procar, segir að Samgöngustofa telji tillögur bílaleigunnar um úrbætur fullnægjandi og því verði ekki aðhafst frekar í þessu máli að svo stöddu. Gestur segir að það sem Procar hafi gert, auk þess að bjóða fólki bætur, sé að framvísa aksturssögu til kaupenda og taka upp verklagsreglur til að tryggja að mál sem þetta komi ekki upp aftur og að lögum sé fylgt. Bæturnar byggjast á niðurstöðu óháðs matsmanns sem var fenginn til að meta tjón af því að átt hefði verið við akstursmæla.
22
Procar-svindlið komið inn á borð héraðssaksóknara Procar-málið er komið inn á borð héraðssaksóknara til rannsóknar. Fram kom á dögunum að Samgöngustofa ætlar ekki að svipta bílaleiguna Procar starfsleyfi því að tillögur fyrirtækisins að úrbótum voru taldar fullnægjandi. Eins og fram hefur komið upplýsti Fréttaskýringaþátturinn „Kveikur“ um umfangsmikið svindl bílaleigunnar Procar í febrúar þessa árs. Gögn sýndu að átt hefði verið við kílómetrastöðu bíla áður en þeir voru seldir á að minnsta kosti fimm ára tímabili. Procar gekkst við brotunum og hét því að bjóða þeim bætur sem voru blekktir. Síðan málið kom upp hefur viðbragðsleysi vegna þess verið gagnrýnt en það heyrir undir Samgöngustofu. Í fréttum RÚV í lok apríl sagði Þórólfur Árnason, forstjóri stofnunarinnar að gripið yrði til leyfissviptingar ef brotin reyndust jafn alvarleg og þau litu út fyrir að vera. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur ítrekað komið því á framfæri við lögreglu og Samgöngustofu að málið þoli ekki frekari tafir til að verja rannsóknarhagsmuni, koma verði í veg fyrir samkeppnisbrot og vernda neytendur. Í grein sem Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, skrifaði í síðasta FÍB-blaði sagði hann að Procarsvindlið hafi dregið úr trausti neytenda í viðskiptum með notuð ökutæki og skaðað neytendur og fyrirtæki fjárhagslega. Hann sagði enn fremur að á markaðnum séu ökutæki með skráninguna „bílaleiga“ í eigendaeða umráðaferli mun lakari og verðminni vara en áður.
Vinna vegna mögulegra breytinga á kílómetratölu akstursmæla ökutækja stendur enn yfir Vinna Samgöngustofu í málefnum ökutækjaleiga vegna mögulegra breytinga á kílómetratölu akstursmæla ökutækja stendur enn yfir. Óskað var eftir upplýsingum og gögnum frá öllum ökutækjaleigum með starfsleyfi, alls 127 talsins. Gera þarf skýran greinarmun á annars vegar starfsemi ökutækjaleigu í samræmi við lög um ökutækjaleigur á grundvelli starfsleyfis og hins vegar endursölu ökutækja á almennum markaði. Samgöngustofa hefur eingöngu valdheimildir gagnvart hinu fyrra. Hin meintu brot áttu sér að meginstefnu til stað við endursöluna og eru því til skoðunar hjá lögreglu. Samgöngustofa veitir starfsleyfi til ökutækjaleiga í atvinnuskyni. Í þessu regluverki kemur fram sú skylda ökutækjaleigu að hún skuli í öllu fara eftir ákvæðum laganna og leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Þá segir að tryggja skuli að ökutæki séu í góðu ásigkomulagi, hljóti gott viðhald og eftirlit. Samkvæmt lögum um ökutækjaleigur skal Samgöngustofa senda leyfishafa skriflega viðvörun um fyrirhugaða niðurfellingu leyfis þar sem tilefnið er tiltekið og leyfishafa veitt ráðrúm til úrbóta. Í einu tilfelli, þar sem ökutækjaleiga gekkst við umræddum breytingum á kílómetrastöðu, sendi stofnunin leigunni slíka viðvörun þar sem greint var frá því að fyrirhugað væri að fella niður leyfi félagsins. Þar sem þessi tiltekna ökutækjaleiga hafði sannanlega bætt úr annmörkum, með því m.a. að bæta innra eftirlit þannig að þetta myndi ekki endurtaka sig, var litið svo á að stofnunin hefði ekki lagaheimild til þess að framkvæma sviptinguna. Hins vegar sendi Samgöngustofa öll gögn málsins til lögreglu sem nú hefur málið undir höndum.
FÍB fundaði með ráðherra neytendamála Steinþór Jónsson formaður FÍB og Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB áttu fund með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra neytendamála, 27. júní sl. Á fundinum lýsti FÍB yfir áhyggjum sem tengdust Procar-svindlinu og var farið yfir hugmyndir og áherslur samtakanna varðandi aðgerðir til þess að koma í veg fyrir að svona geti gerst. Procar-málið var þungamiðja fundarins en FÍB undirstrikaði jafnframt og taka þyrfti með ákveðnum hætti á svikastarfsemi af þessu tagi, eins og Procar hefur orðið uppvíst að. Farið var yfir að skerpa þyrfti á reglum varðandi niðurfærslu á kílómetrastöðu í bílum, setja í lög ákvæði sem taka á mögulegum inngripum í akstursstöðu ökutækja og niðurskrúfum ökutækja. Á fundinum var enn fremur farið yfir til hvaða aðgerða hefði verið gripið til í Evrópu í þessum efnum. Evrópuþingið hefur sérstaklega fjallað um mál af þessu tagi og farið hefði verið í markvissar aðgerðir í nokkrum löndum eins og Póllandi og Belgíu. Á fundinum með ráðherra fóru fulltrúar FÍB enn fremur yfir aðalskoðun bílaleigubíla en talið er mjög óeðlilegt að þessir bílar kæmu líkt og aðrir fjölskyldubílar bara til skoðunar fyrst eftir fjögur ár. Miðað við þann mikla akstur á bílaleigubílum væri það alveg ljóst að það gæti verið aðför að öryggi annarra vegfarenda. Þá var farið yfir hugmyndir um starfstarf bílgreinarinnar, opinberra aðila og bíleigenda varðandi skráningu á kílómetrastöðu hjá viðurkenndum þjónustuaðilum ökutækja og bifreiðaskoðunarfyrirtækjum. Skráningum yrði síðan í framhaldinu safnað saman í einhvers konar miðlægan gagnagrunn að belgískri fyrirmynd. Þar í landi gengur umræddur gagnagrunnur undir yfirskriftinni Car Pass. Á fundinum kom til tals við ráðherra staða frumvarps til laga um viðskipti með notuð ökutæki. Legið hefur í ráðuneytinu í nokkurn tíma nánast full mótað frumvarp varðandi lagabreytingar á þessu sviði en þær hafa það markmið að auka neytendavernd í bifreiðaviðskiptum. Ráðherra var hvattur til að setja málið á dagskrá Alþingis. Einnig var fjallað um almenna tengingu bifreiða- og ferðafélaga í Evrópu og á Norðurlöndunum við mögulega uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi. Ráðherra tók almennt vel í málflutning FÍB á fundinum en taldi æskilegt að fara varlega í lagasetningar. Þórdís Kolbrún var hins vegar sammála um mikilvægi viðskiptasiðferðis og jafnræðis á milli fyrirtækja. Markmið og áherslur FÍB eru alltaf að tryggja það að staða neytenda sé ekki lakari en það sem best þekkist í Evrópu.
23
Dráttarbeisli Nær ótæmandi tækifæri eru til að auka á notagildi einkabílsins með því að bæta við dráttarbeisli. Eins og með svo margt annað þarf að huga að ýmsum atriðum áður en beislinu er skellt undir og eftirvagninn tengdur við.
Kaup
7 póla tengi
13 póla tengi Býður uppá fleiri tengimöguleika. Læsist við við tengi, dregur út hættu á að ryk og vatn komist að.
Algengsta gerð kerru tengla í dag. Hægt að fá millistykki fyrir 13 póla.
Dráttarbeisli og krókar koma í ýmsum útfærslum og verðflokkum. Flest bílaumboð geta boðið upp á beisli fyrir bíla sína en einnig eru fjölmargir aðrir innflutningsaðilar. Kostnaðurinn er mismunandi en greiða þarf fyrir beisli, rafmagnstengi og snúrur, ásamt skráningu. Rafmagnstenglar Hér áður fyrr þótti það ekki tiltökumál að stela rafmagni fyrir kerrutengið frá afturljósum bílsins. Í dag getur þetta hins vegar orsakað mikinn vanda fyrir bíleiganda þar sem vélartölva bílsins getur skynjað þetta sem bilun. Með því að fá vírasett sem er útbúið sérstaklega fyrir viðkomandi bifreið er hægt að stinga beint í samband við tengi sem útvegar allt rafmagn fyrir eftirvagninn og þá er ekki bara verið að tala um ljósabúnað, heldur einnig t.d. auka rafmagn, stöðugleikakerfi og ABS hemla. Tvær megin gerðir rafmagnstengla eru á markaðnum í dag, annars vegar þrettán póla tengi og síðan sjö póla. Þrettán póla tengið er sífellt að verða algengara þar sem það býður upp á fleiri tengimöguleika fyrir ljós og þá læsist klóin við tengið og dregur úr hættu á að ryk og vatn komist að. Hægt er að fá millistykki milli beggja tegunda í varahlutaverslunum og er því í flestum tilfellum hægt að bjarga sér.
24
Mismunandi útfærslur Krókar Á fólksbíl er oftast ódýrasti kosturinn að fá fastan krók sem kemur undan afturstuðara og er jafnan kallaður svansháls (e. swan neck). Í flestum tilfellum er hægt að sleppa með að skera í stuðara þar sem beislið kemur í sveigju undan honum. Einnig eru í boði lausir krókar sem eru eitthvað dýrari en þeir föstu. Laus krókur er hentugur ef krókur er ekki notaður það oft eða út frá fagurfræðilegu sjónarmiði. Beisli Á stærri bílum hefur verið vinsælt að setja prófílbeisli. Þetta eru sterk beisli sem hafa fjölbreyttara notagildi. Á beislinu er ferhyrnt sæti sem hægt er að festa í krók, dráttarspil, hjólafestingar eða hvað sem mönnum dettur í hug. Algengt er að þetta sé smíðað eftir máli hér heima en einnig er hægt að panta slíka vöru erlendis frá. Dráttarkrókur getur einnig verið innbyggður í suma bíla, bæði hand- og rafdrifinn, og kemur hann öllu jöfnu þannig útbúinn frá umboði. Þannig er dráttarkúlan falin þegar hún er ekki í notkun og lítið mál að koma henni á sinn stað. Af fenginni reynslu er gott að liðka reglulega upp á þessum búnaði. Þá er gott að minnast á að þvermál dráttarkúlu skal vera 50 mm en dráttarkúlur eru smærri um sig á bifreiðum frá t.d. Bandaríkjunum. Þá þarf að hafa í huga að krókur trufli ekki bakkskynjara. Dæmi eru um að framleiðendur vilji að bíll sé í upphafi pantaður með dráttarbeisli þar sem þeir bílar eru t.d. með stærri bremsur og stífari afturfjöðrun. Einnig gæti verið krafa frá framleiðenda að með dráttarbeisli þurfi að auka á kælingu vélar og því er mikilvægt að skoða hvort ásetning dráttarbeislis hafi áhrif á ábyrgð framleiðenda. Eftirvagnar eru þau tæki sem eru útbúin til flutninga af einhverju tagi og burðargeta yfirleitt meiri en eigin þyngd vagns. Þetta eru til dæmis kerrur og flatvagnar.
Tengitæki eru hjólhýsi og fellihýsi þar sem burðargeta er lítill hluti af heildarþyngd enda er ekki gert ráð fyrir að flytja annað en búnað og vistir.
25
Eru ljós og tengingar í lagi? Ganga þarf úr skugga um að öll ljós séu í lagi og á stærri vögnum er skylda að hafa breiddar- og hliðarljós og í sumum tilfellum einnig hæðarljós. Þá eiga að sjálfsögðu bremsu-, stöðu-, stefnu- og númeraljós að vera til staðar.
Speglar Ef hýsið skyggir á útsýnið er ökumanni er skylt að nota framlengingar á hliðarspeglana. Þetta er gríðarlega mikið öryggisatriði sem vill stundum gleymast. Hægt er að nálgst framlengingar sem passa á flesta bíla í næstu varahlutaverslun.
Ef ástandið á ljósabúnaði er verulega slæmt eða hreinlega vantar þá er fljótleg og þægileg lausn að kaupa ljósabretti í næstu verkfæraverslun sem er með öll ljós og tengla til staðar.
Hvernig er ástand á beisli? Kerrutengið á að læsast þétt um dráttarkúluna, ásamt splitti til að læsa. Öryggiskeðju skal festa við bílinn svo að vagninn fylgi bílnum losni kerrutengið af beislinu. Á sumum vögnum er bremsuvír sem á að tengjast við bílinn. Skyldi vagninn losna frá bílnum virkjast bremsurnar á vagninum til að stoppa hann sem fyrst. Mikilvægt er að nota ekki saman öryggiskeðju og bremsuvír, þar sem virknin verður ekki rétt losni vagn af beisli.
26
Hjólabúnaður
A
Slæmt ástand á legum og dekkjum getur skapað mikla hættu. Gott ráð er að skoða reglulega hjólabúnað og tryggja réttan loftþrýsting. Vísbendingar um að legur séu að bila eru til dæmis: Hávaði eða titringur þegar hýsið er dregið, óeðlilegur hiti kemur frá felgu eftir akstur eða óeðlilegur sláttur er í hjólabúnaði þegar ýtt er við hýsi eða kerru. Einnig er hægt að lyfta dekkjum frá jörðu og snúa dekki eða ýta við því ef óeðlileg hljóð eða slag er og þá þarf að skoða málið nánar.
B C
Þá er einnig nauðsynlegt að skoða fjöðrunarbúnað, hvort gormar, fjaðrir, demparar eða annar búnaður virki rétt og sé óbrotinn.
Hleðsla Röng hleðsla er alltof algeng sjón á íslenskum vegum og getur skapað mikla hættu. Tungufarg (e. tongue weight) lýsir þeirri þyngd sem hvílir á dráttarkúlu bílsins. Með því að hafa of mikla eða litla hleðslu á dráttarkúlu geta aksturseiginleikar bílsins gjörbreyst til hins verra.
Gott er að yfirfara undirvagn einnig með tilliti til ryðs eins og á öxli og beysli og aðrar festingar.
Á sumum vögnum er hægt að sjá hver kjörhleðslu á beisli skuli vera. Þarft er samt að huga að burðargetu beislis á bílnum. Sé tekið dæmi um meðalstórt hjólhýsi, sem er skráð með kjörhleðslu á beisli upp á 110 kíló en hámarkshleðsla á dráttarkrók er 75 kíló, skal fara eftir lægstu uppgefnu tölu. Liggi engar upplýsingar fyrir má reikna með að 5-7% af heildarþyngd vagns skuli hvíla á beisli. Hægt er að mæla tungufarg með nokkrum aðferðum eins og sérstökum þrýstimælum sem eru t.d. á nefhjóli eða stöng sem heldur vagninum uppi að framan. Einnig geta menn notast við baðvog og slakað hýsinu niður á hana til að sjá hversu mikil þyngd muni hvíla á bílnum. Síðan er hægt að færa þyngdir aftar í húsið til að létta á eða framar til að þyngja. Einnig er mögulegt að setja þyngri hluti í skottið á bílnum ef það munar miklu. Á meðfylgjandi mynd má sjá með einföldum hætti hvaða áhrif röng hleðsla hefur á bílinn.
A. Mesta þyngd fyrir miðju ofan á öxli. Lítið álag er á bílinn umfram þá þyngd sem er verið að draga. B. Hleðsla er of mikil fremst og dráttarkrókur og hjólbúnaður undir miklu álagi. Bíllinn er líklega kominn yfir burðargetu. Fjöðrun og stýri ná ekki að vinna eðlilega ásamt því að grip minnkar á framhjól. Við þessar aðstæður getur bíllinn einnig misst grip við hemlun. C. Mest þyngd liggur aftast á eftirvagni og beislið togar bílinn upp að aftan og hann byrjar að missa snertingu við veginn. Hemlar bílsins vinna ekki rétt og í verstu tilfellum byrjar vagninn að rása til á veginum ásamt bílnum. Ef ekkert er að gert þá eykst á rásun þar til ökumaður missir alla stjórn.
Dráttarbeislið Beislið slitnar eins og aðrir hlutir og þarf að yfirfara það reglulega. Þá er aðallega horft til hvort lás virki eðlilega og standi ekki á sér og að sætið fyrir kúluna sé ekki orðið of slitið þannig að of rúmt sé um dráttarkúluna. Í flestum tilfellum er einfalt að skipta um það og kostnaðurinn ekki mikill.
27
Rafgeymakönnun FÍB 2019 FÍB kannaði verð á ákveðnum bílarafgeymum í byrjun sumars. Starfsmaður hafði samband við söluaðila rafgeyma og óskaði eftir upplýsingum um verð á 70 Ah rafgeymi fyrir meðalstóran fjölskyldubíl af gerðinni Toyota Auris diesel. Um er að ræða algenga stærð af rafgeymi sem notaður er í marga meðalstóra fjölskyldubíla sem eru meðal þeirra söluhærri á Íslandi. Eingöngu var spurt um verð á rafgeymum en ekki var verið að kanna aðra þjónustu s.s. rafgeymaskipti, -prófun eða -mælingu og þá hvort sú þjónusta sé innifalin í verðinu. Neytendur ættu að kynna sér þessi þjónustuatriði áður en gengið er frá kaupum. Óskað var eftir upplýsingum um verð á rafgeymum fyrir Toyota Auris diesel. Þessi tiltekni bíll, líkt og langflestir nýlegir bílar, er með startstopp búnaði þannig að rafgeymirinn þarf að vera búinn sjálfræsibúnaði, sem drepur á bílum við stöðvun og startar sjálfvirkt þegar tekið er af stað. Rafgeymar í bílum með startstop útfærslunni (AGM eða EFB) geta verið viðkvæmir og endast skemur ef þeir eru ekki hlaðnir reglulega. Þessir geymar eru almennt dýrari í verði en hefðbundnir geymar. Start-stop geymar þurfa að þola fleiri ræsingar (stört), endurhleðslur og meira álag. Bílar sem eru útbúnir start-stopp
búnaði þurfa að ræsa oftar þar sem þeir drepa á sér við það að stöðva t.d. á umferðarljósum. Gríðarlega mikil orka fer í að snúa mótornum í gang þannig að rafgeymirinn þarf að vera sérstaklega hannaður og gerður til að þola miklar breytingar á hitastigi, orkufreka tækjanotkun og síendurteknar ræsingar í bæjarakstri þar sem vegalengdir eru stuttar. Í könnuninni var einnig óskað eftir upplýsingum um kaldræsi mælt í amperum (CCA) en það vísar til þess hversu duglegur rafgeymirinn er við kaldar aðstæður. Algengasta afkastageta geyma í meðalstórum bílum er 70 amperstundir en í tveim tilvikum bauð söluaðili fram aðeins afkastaminni geyma eða 60 og 65 amperstundir sem eru einnig í könnuninni. FÍB kannaði verð á rafgeymum síðast fyrir tæpum tveim árum og frá þeim tíma hafa orðið talsverðar breytingar. Costco hefur haft veruleg áhrif á verðlagningu rafgeyma hér á landi en eru ekki með að þessu sinni. Þar sem áherslan í þessari könnun er á startstopp rafgeyma þá er hún ekki alveg samanburðarhæf við könnunina frá 2017. Óskað var eftir þátttöku 25 aðila í könnunni en svör bárust frá 17 þeirra af þeirri ástæðu að ekki buðu allir upp
Mikill verðmunur er á milli söluaðila. Ódýrasti rafgeymirinn kostar 17.496 krónur en er 65 Ah og með lakasta kaldræsið og fæst hjá Ásco á Akureyri. Dýrasti geymirinn fæst hjá Skeljungi og kostar 42.200 krónur, sá geymir er 70Ah. Þetta er yfir 141% verðmunur en ekki er lagt mat á gæði við þennan samanburð. Hlutverk rafgeymis Fyrsta verkefni rafgeymisins er að gangsetja vélina. Stærð vélarinnar eða rúmtak er það sem helst ákvarðar straumþörfina og rýmd rafgeymisins fyrir hvert viðfangsefni. Rýmd rafgeymisins er mæld með tvennum hætti; amperastundir (AH) og kaldræsiamper (CCA). Amperastundagildið segir til um getu rafgeymisins til að gefa frá sér straum í tiltekinn tíma. Kaldræsiamper er geta rafgeymisins til að gefa frá sér straum við lágt hitastig. CCA gildi rafgeymis fyrir tiltekið verkefni er í réttu hlutfalli við vélarstærðina og það ákvarðar lágmarksstraumþörf til gangsetningar. Kaldræsiamper verða að vera þau sömu eða hærri
Forsendur
Óskað eftir upplýsingum um
Toyota Auris
Verð:
1400 dísel
Framleiðandi
Árgerð 2016
Amp:
Mál L/B/H mm. 278/175/190
Kaldræsi (CCA):
Kaldræsi CCA 640 A Start/stopp - EFB Stærð 70Ah 28
á start- stopp geymi í umræddan bíl í könnunni. Þessir rafgeymar sem fram koma í könnuninni eiga samkvæmt söluaðilum að vera með start-stopp búnaði.
en rýmd rafgeymisins. Rafgeymar með minni rýmd geta gangsett stórar vélar en það er ekkert til að treysta á sérstaklega ef kalt er í veðri. Annað verkefni rafgeymisins er að gefa straum þegar hleðslukerfið er yfirlestað. Þetta gerist oftast (þó ekki alltaf ) þegar vélin gengur á lægri snúningi en eðlilegt er. Rafhlutir, ljós, eldsneytisdæla og eldsneytiskerfi nota mest af því sem
hleðslukerfið framleiðir. Ef bætt hefur verið við aukarafbúnaði er ekki víst að hleðslukerfið ráði við aukna rafmagnsþörf og þá verður rafgeymirinn að bæta við þeim straumi sem þarf til að knýja þessa hluti.
spennu. Þar að auki geta myndast háir spennutoppar þegar kveikt eða slökkt er á tilteknum rafkerfum. Slíkar spennusveiflur er deyfðar í rafgeyminum og það verndar rafeindabúnað gegn skemmdum, þ.m.t. tölvu- og kveikjukerfi.
Þriðja verkefni rafgeymisins er að vera spennujafnari fyrir hleðslukerfið. Hleðslukerfin þurfa einhverja mótspyrnu svo þau myndi ekki of háa
Söluaðili
Verð
Framleiðandi
Amp
Kaldræsi CCA
AB Varahlutir
29.990
Panther Premium
70ah
760A
Automatic
37.995
INTACT
70ah
760A
Automatic
28.995
INTACT
70ah
680A
Ásco
17.496
ZAP
65ah
620A
Bílanaust
39.995
Varta
70ah
760A
Kemi
20.990
Bosch
70ah
640A
Max 1
19.990
Exide Premium
72ah
730A
Motormax
39.995
Varta
70ah
760A
N1
39.000
Banner
70ah
720A
Bílabúða Benna
30.301
DEKA
70ah
760A
Poulsen
18.900
Bosch
60ah
680A
Rafgeymasalan
30.820
Varta N70
70ah
760A
Skeljungur
42.200
ZAP Expedition
70ah
640A
Skorri
28.400
Tudor
70ah
720A
Stilling
34.990
Yuasa
70ah
680A
Toyota
21.380
Toyota
70ah
640A
Vaka
34.990
Bosch
70ah
640A
Tilkynning til félagsmanna FÍB Um næst komandi áramót mun FÍB hætta prentun greiðsluseðla til heimsendingar, félaggjaldið mun einungis birtast í heimabanka félagsmanns.
Við verðum að sjálfsögðu við ósk þeirra félagsmanna sem óska sérstaklega eftir því að fá heimsendan greiðsluseðil, vinsamlegast hafið þá samband í síma 414 9999 eða sendið póst á fib@fib.is Félagskveðja, starfsfólk FÍB 29
ÖRUGGT START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Exide rafgeymarnir eru sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir bifreiða sem hafa reynst mjög vel í íslenskum aðstæðum. Exide start- og stöðugeymarnir eru viðhaldsfríir, og með mikið kaldræsiþol.
Ferðahleðslutæki með startköplum.
Hafið samband við sérfræðinga Olís í síma 515 1100 eða pontun@olis.is og fáið nánari upplýsingar.
Rekstrarland verslun
30
Vatnagörðum 10
104 Reykjavík
Sími 515 1500
rekstrarland.is
Verum vakandi fyrir röngum hleðsluaðferðum Samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftlagsmálum er stefnt að því að árið 2030 verði 100 þúsund rafbílar eða önnur vistvæn ökutæki á Þórður Þorsteinsson Íslandi. Í maí 2015 rafmagnstæknifr. voru rúmlega 500 raf- og tvinnbílar hér á landi en í dag eru þeir tæplega tíu þúsund. Því þarf að bæta við að minnsta kosti níutíu þúsund rafbílum á næstu ellefu árum, eigi að ná settum markmiðum. Það segir sig sjálft að á þessum tíma munu margir nota rafbíl í fyrsta skipti og töluverður hópur þurfa að koma fyrir hleðsluaðstöðu í heimahúsi. Notendur eru vanir að fara út á bensínstöð og dæla bensíni eða dísel á bílana en raf- og tvinnbílum fylgja nýjar og spennandi áskoranir. Við þurfum að tileinka okkur réttar og öruggar leiðir til að hlaða bílana. Að hverju þarf að huga við hleðslu rafbíla? Svo að rafbíllinn sé álitlegur kostur þarf notandi að hafa öruggan aðgang að hleðsluaðstöðu. Flestir rafbílaeigendur hlaða daglega eftir vinnudaginn, þegar heim er komið. Flestir nýir rafbílaeigendur þurfa því að koma upp hleðsluaðstöðu heima fyrir. Í dag er of algengt að rafbílaeigendur noti heimilisinnstungur við bílastæði án þess að fullvissa sig um að þær þoli þann háa straum sem rafbíllinn tekur við hleðslu í marga klukkutíma. Töluverð eldhætta getur skapast við rangri notkun á rafbílahleðslu. Gera má heimahleðslu rafbíla örugga með því að fá álit sérfræðings á uppsetningu og koma fyrir búnaði sem er hannaður fyrir hleðslu rafbíla. Sumir láta setja upp sérstaka hleðslustöð sem hentar vel til heimahleðslu, aðrir hafa skipt heimilistenglum út fyrir iðnaðartengla.
Einhverjir nota upprúllaðar framlengingarsnúrur en of margir nota hefðbundnu heimilistenglana sem eru ekki hannaðir til að hlaða rafbíla á fullu álagi í langan tíma. Þá er sífellt að verða algengari sjón að framlengingarsnúrur liggi út um glugga á annarri hæð, niður á gangstétt, yfir hana og að bílnum. Þetta er ekki aðeins til þess fallið að auka hættu á íkveikju, heldur eykur þetta hættu á slysum fyrir gangandi vegfarendur. Sjálf erum við besta forvörnin og hvetur Verkís notendur rafbíla til að skoða reglulega búnaðinn sem notaður er við hleðslu, þ.e. tengla, hleðslustöðvar, snúrur og klær. Mikilvægt er að láta hleðslutæki aldrei hanga. Það getur skekkt tengingu og við það getur samband orðið lélegt sem orsakar meiri hita og jafnvel neista. Þá er gott að huga að því hvort tengillinn, sem notaður er til að hlaða með, sé á sérstöku öryggi, hvort frágangur sé réttur í töflu, hvort vírarnir séu nógu sverir, frágangur á tengli sé réttur og hvort tengillinn sé gamall og slitinn eða jafnvel brunninn. Sé vafi fyrir hendi með þessi atriði er skynsamlegt að fá sérfræðing til að yfirfara kerfið.
Til eru lausnir sem henta flestum Í þessum málum standa oft eigendur einbýlis-, rað- og parhúsa betur að vígi en eigendur íbúða í fjölbýlishúsum. Þeir fyrrnefndu eru oftast með eitt eða fleiri merkt stæði en hinir eru oftar með sameiginleg bílastæði. Hjá einbýlis-, rað- og parhúsum er yfirleitt þægilegt að koma fyrir hleðslustöð. Í flestum tilfellum er um minniháttar framkvæmdir að ræða, lagnaleiðir eru stuttar og hleðlustöðin er helsti kostnaðarliðurinn. Í fjölbýlishúsum geta lagnaleiðir verið langar, jafnvel er þörf á álagsstýringum og bílastæði eru oftast ekki sérmerkt heldur í sameign. Einnig þarf að ríkja sátt og samstaða um framkvæmd og fyrirkomulag meðal húseigenda. Til að sátt ríki við uppsetningu hleðsluaðstöðu rafbíla, sem oft er ekki tímabær fyrir alla íbúa, er mikilvægt að halda utan um raforkunotkun við hleðslu. Fram til þessa hafa eigendur rafbíla í fjöleignarhúsum m.a. komið fyrir sérkostnaðarmæli eða áætlað greiðslu fyrir rafbílaeiganda vegna aukinnar rafmagnsnotkunar sameignar. Þessar lausnir duga þó skammt miðað við fjölgun rafbíla nú og á næstu árum. Koma verður á betra fyrirkomulagi og heildstæðum lausnum sem henta húsnæðinu og íbúum þess. Meðal annars þarf að kanna hvort heimtaug hússins sé
Hér á landi er dæmi um að kviknað hafi í vegna notkunar á framlengingarsnúru við hleðslu rafbíla.
31
nægilega stór, þ.e. hvort flutningsgeta hennar dugi til þess að anna þeim fjölda rafbíla sem á að hlaða í húsinu. Ráði heimtaug hússins ekki við álagið má í flestum tilfellum leysa álagsvanda með álagsstýringu.Til þess að stýra aðgangi og mæla orkunotkun hvers og eins geta fjöleignarhús komið fyrir aðgangsstýringu hleðslutækja við ómerkt bílastæði. Þannig virkja íbúar hleðslu með aðgangskorti svo að mögulegt sé að halda utan um og rukka fyrir orkunotkun hvers og eins notenda. Verkís tekur að sér að aðstoða íbúa við að útfæra hleðsluaðstöðu í fjöleignarhúsum. Að fenginni reynslu mælir Verkís eindregið með að íbúar fjöleignarhúsa láti skoða lausnir sameiginlega og að hleðsluaðstaða fyrir allt húsið verði útfærð á sama tíma. Með því má hanna heildstætt kerfi sem hentar íbúum. Ekki er þó þörf á því að setja upp allan endabúnað á sama tíma en gott að allar lagnaleiðir séu til staðar og búið verði að útfæra kerfið. Þannig má bæði koma til móts við þá sem eiga rafbíla og hina sem eiga þá ekki. Verkís aðstoðar íbúa við að útfæra hleðsluaðstöðu í fjöleignarhúsum en eru óháðir söluaðila og útfæra lausn sem hentar aðstæðum þínum. Algengustu hleðsluaðferðirnar Mannvirkjastofnun hefur gefið út leiðbeiningar vegna hleðslu rafbíla þar sem farið er yfir fjórar hleðsluaðferðir. Af þessum fjórum er algengast að aðferðir tvö og þrjú séu notaðar fyrir hleðslu rafbíla. Við tengingu rafknúins farartækis við raflögn eru notaðir staðlaðir allt að 32 A jarðtengdir tenglar, t.d. tenglar til heimilisnota eða iðnaðartengla. Í stjórnboxi sem er á hleðslustrengnum er komið fyrir sérstökum stjórn- og öryggisbúnaði til að tryggja öryggi fólks. Í þessu tilviki er hleðslutæki rafbílsins stungið í samband við hefðbundna heimilisinnstungu. Hér þarf að hafa í huga að flestir tenglar þola háan straum aðeins í takmarkaðan tíma og er því sterklega mælt með því að 32
hleðslustraumurinn sé takmarkaður að hámarki 10 A. Í flestum tilfellum má stilla hleðslustraum í bílnum sjálfum. Verkís mælir ekki með því að heimilisinnstungur séu notaðar nema sérfræðingur hafi yfirfarið búnað, uppsetningu og stillingar því að reynslan hefur sýnt að talsverð brunahætta getur átt sér stað. Mikilvægt er að hleðslutæki sé stungið beint í innstunguna og að ekki séu notuð fjöltengi, millistykki eða framlengingarsnúrur þar sem mikill hiti getur myndast í þeim búnaði og tengli. Framlengingarsnúrur geta til dæmis hitnað mikið, sérstaklega ef þær eru vafðar upp. Hér á landi er dæmi um að kviknað hafi í vegna notkunar á framlengingarsnúru við hleðslu rafbíla. Því ætti aldrei að nota slíka snúru þegar rafbíllinn er hlaðinn. Hleðsluaðferð 3: Við tengingu rafknúins farartækis við raflögn er notaður sérhæfður búnaður til hleðslu rafknúinna farartækja og er hann fasttengdur raflögn. Hinn sérhæfði búnaður tryggir að rafbíll sé tengdur raflögn á áreiðanlegan og öruggan hátt. Einnig má aðlaga hleðslustraum að raflögnum allt að 32 A. Einungis er notaður tengibúnaður sem sérstaklega er gerður til hleðslu rafbíla.
Þær eru hraðvirkari, auðveldar við álags- og aðgangsstýringu og sjá má yfirlit yfir notkun. Verkís mælir með að hleðslustöðvar séu notaðar við daglega hleðslu rafbíla hvort sem er á vinnustað eða í heimahúsi. Hvernig getum við aðstoðað þig? Eins og sjá má er að mörgu að huga þegar kemur að öruggri hleðslu rafbíla. Stundum getur lausnin verið mjög einföld en í öðrum tilfellum þarf að skoða málið betur. Einn af þjónustuþáttum Verkís er ráðgjöf til rafbílaeigenda vegna hleðslu rafbíla. Þjónustuþættir eru ástandsskoðun, könnun á hleðslumöguleikum, gerð kostnaðaráætlunar, álagsmælingar og vöktun, hönnun og val á búnaði og úttekt á uppsettum kerfum. Þjónusta Verkís hentar íbúðareigendum, sumarhúsaeigendum, húsfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum. Hægt er að útfæra hleðsluaðstöðu fyrir rafbíla í fjölbýlishúsum á marga vegu, til dæmis veitir Verkís aðstoð við að sníða lausn sem hentar þér. Hér er einni slíkri hönnun lýst: „Aðstæður eru þær að um er að ræða fjölbýli með 60 íbúðum og
Í hleðsluaðferð þrjú eru hleðslustöðvar sem henta heimilum og geta stytt hleðslutíma. Við kaup á slíku tæki ætti að hafa nokkur atriði í huga. Kanna þarf hvað hentar bílnum, huga þarf að fjölda rafbíla sem munu nota stöðina og hvaða upplýsingar notandinn vill hafa aðgang að í stöðinni, hvort þurfi að álagsstýra og/eða aðgangsstýra og sumir vilja jafnvel hafa stöðina í „stíl við húsið“. Hleðslustöðvar eru öruggari kostur en að stinga hleðslutæki bíls í samband við tengil. Mikilvægt er að hleðslutæki sé stungið beint í samband við innstungu en ekki notast við framlegngingarsnúru.
bílakjallari með sérmerktum stæðum á hverja íbúð. Aðaldreifing er í tæknirými í kjallara með mælum fyrir hverja íbúð. Fara þarf í gegnum tvo brunaveggi til að komast inn í bílakjallarann með lagnir. Ákveðið var, aðallega vegna brunahólfa og útlitslega snyrtilegra lagnaleiða, að skipta verkinu og kostnaði í tvo áfanga, annars vegar sameiginlegar lagnaleiðir, millitengiskáp í bílakjallara og lagnir milli hans og aðaldreifingar og hins vegar sérkostnaður, það er lögn frá millitengiskáp og að tengli við bílastæði. Kostnaði var skipt í tvennt, þá annars vegar öll framkvæmd og hins vegar endabúnaður sem hver og einn notandi greiddi fyrir. Kostnaður reyndist lægri en íbúar höfðu gert sér í hugarlund fyrir fram. Samhliða þessu var sett upp mælastöð á heimtaugina til að fylgjast með hvernig álagið vex á henni.“ Þjónustupakkar Verkís Pakki 1: Hentar til þess að gera skjóta athugun á möguleikum. Viðskiptavinir fá minnisblað þar sem kemur fram hvaða möguleikar henta. Pakki 2: Hentar til þess að taka upplýstar ákvarðanir. Viðskiptavinurinn fær grófa kostnaðaráætlun, ástandsskoðun, álagsmælingu og skýrslu. Pakki 3: Leið til uppsetningar á hleðslustöðvum. Viðskiptavinurinn fær kostnaðaráætlun, ástandsskoðun, álagsmælingu, hönnun, skýrslu og úttekt. Pakki 4: Lausn sniðin að þörfum þínum. Viðskiptavinurinn setur saman eigin pakka. Að lokum biðlum við til allra að vera vakandi fyrir rangri notkun við hleðslu rafbíla. Við þurfum saman að auka vitund almenning á réttum hleðsluaðferðum. Vinalegar ábendingar eru ávallt besta leiðin. Höfundur: Þórður Þorsteinsson, rafmagnstæknifræðingur hjá Verkís (tt@verkis. is) Nánari upplýsingar um þjónustu Verkís: www.verkis.is/thjonusta/hledsla-rafbila Myndir af hleðsluaðferðum tvö og þrjú eru birtar með leyfi Mannvirkjastofnunar.
33
Reynsluakstur Hyundai Kona EV Fyrir tæpum tveimur árum var sport „jeppinn“ Hyundai Kona kynntur til sögunar og hefur hann fengið ágætar viðtökur þar sem vinsældir sportlegra lífstílsbíla með aukna veghæð ætlar engan endi að taka. Þá kemur Kona einnig til greina fyrir val á bíl ársins hér á landi fyrir 2018. Mikil eftirvænting hefur ríkt meðal rafbílaáhugamanna eftir 64 kWh Hyundai Kona EV enda býður bíllinn upp á einna lengstu drægni þeirra bíla sem eru í boði hér á landi eða allt að 449 km skv. nýja WLTP-staðlinum. Fyrst um sinn verður eingöngu boðið upp á Premium útgáfu af bílnum með fyrrnefndri 64 kWh rafhlöðu en utanlands er bíllinn einnig fáanlegur með 39 kWh rafhlöðu og má ætla að
34
hann verði einnig í boði hér á landi á næstunni. Að innan Vel fer um um ökumann við akstur og má þar sérstaklega hrósa þægilegri stöðu sætis en góð áseta og hreyfanleiki stýris gera akstur áreynslulausan, jafnvel í lengri ferðum. Efnisval í innréttingu mætti vera betra en harðplast er ríkjandi á mörgum stöðum. Miðjustokkurinn er í raun tveggja hæða þar sem sú efri býður uppá smáhólf með þrálausri farsímahleðslu, USB og hljóðtengi auk glasahaldara en stórt hólf ásamt 12v tengi er á þeirri neðri sem mun örugglega nýtast ágætlega þegar fram í sækir.
Notkun og aðgengi að upplýsingakerfi bílsins er mjög góð en bíllinn er búinn átta tommu snertiskjá sem situr efst á fyrir miðju mælaborðs. Þá er mælaborðið sjálft allt stafrænt og því auðvelt að kalla fram hinar ýmsu upplýsingar við akstur og jafnframt er, til að toppa upplýsingaflæði til ökumanns, einföldum upplýsingum eins og hraða varpað upp á glerplötu sem kemur upp úr mælaborðinu þegar kveikt er á bílnum. Auðvelt er að framkvæma allar helstu aðgerðir en þær sem gerðar eru á snertiskjá eiga til að seinka. Auðvelt er að tengja og nota síma fyrir tal og streyma tónlist í afburðagott hljóðkerfi frá ameríska hljómtækjaframleiðandanum Krell.
Upplýsingakerfið býður bæði upp á Apple CarPlay og Android Auto Ekki má gleyma því að þrátt fyrir að Kona er ekki stór bíll þó að hann sé flokkaður sem sportjeppi eða jepplingur og mest áhersla er lögð á pláss og þægindi fyrir framsæti. Rými í aftursætum er þokkalegt en hliðarrúður eru fremur smár og hátt uppi en það skerðir útsýni fyrir börn. Einnig er skottið fremur lítið eeða einungis 332 lítrar með sæti í uppréttri stöðu. Auðvelt er að hlaða bílinn þar sem engin brík er á skottinu og gildir það sama þegar aftursæti eru felld niður og gólfið slétt alla leið og eykst farangursrýmið þá í 1114 lítra.
Öryggi Bíllinn er hlaðinn búnaði til að auka á öryggi við akstur enda náði Kona fullu húsi stiga í Euro Ncapárekstarprófunum. Meðal annars
kemur bíllinn með akgreinavara, blindhornsviðvörun, gagnvirkum hraðastilli (eltir bílinn á undan), sjálfstæðri neyðarhemlun, fjarlægðarskynjara að framan og aftan ásamt bakkmyndavél.
Að utan Rafmagnsútgáfan hefur fengið minniháttar en vel heppnaða andlitslyftingu á neðri afturljósum og einnig hefur grillið einkennandi útlit rafbíls, svipað Hyundai Ioniq EV. Plastklæðning er áberandi en sú útfærsla virðist sleppa fyrir horn þar sem hún er með silfraðri litaáferð og virðist auðveld í viðhaldi frekar en hrátt plast sem getur gránað með tímanum.
35
Þæginleg áseta og fjölbreyttar stillingar gera aksturinn þæginlegan jafn á lengri sem styttri leiðum.
Lítið pláss í aftursætum og smá afturrúða sem situr hátt dregur úr notagildi fyrir fjölskyldufólk.
Akstur Eitt helsta einkenni rafmagnsbíla, fyrir utan að vera hljóðlátir, er stiglaust og jafnt afl sem togar bílinn áfram af miklum ákafa. Reynsluakstursbíllinn er uppgefinn 204 hestöfl og með 395 Nm í tog sem skilar þessum tæplega 1700 kg bíl í 100 á aðeins 7,6 sekúndum. Hægt er að velja um þrjár mismunandi akstursstillingar en þær eru „sparnaðarstilling“ (e. eco) sem slekkur á orkufrekum búnaði og dregur úr afli til að hámarka drægni, „þægindi“ (e. comfort) fyrir almenna notkun og „sport“ þar sem mælaborðið fær á sig GT-útlit og bíllinn verður mun kvikari í hreyfingu.
bílsins þegar rafgjöfinni er sleppt, og því er hægt að stýra hemlun bílsins á auðveldan máta beint úr stýri. Ég saknaði þess að bíllinn stoppar ekki alveg með E-bremsu, eins og til dæmis Nissan Leaf. Almennt var bíllinn hljóðlátur fyrir utan óþarflega mikið suð frá endurhleðsluhreyflum þegar þeir voru að bremsa bílinn niður. Fjöðrunin var mátuleg og hljóðlát og virkaði vel við ýmsar aðstæður. Kona verður ekki í boði með dráttarkrók. Það er miður
þar sem bíllinn ætti að hafa alla burði til að draga kerrur og létt hjólhýsi. Niðurstaða Hyundai Kona er góð viðbót við ört stækkandi rafbílaflóru hér á landi. Það var ekki óvanalegt að heyra fyrir nokkrum árum að rafbílar væru ekki í alvöru samkeppni við sprengihreyfilsbíla fyrr en þeir næðu á Akureyri á einni hleðslu. Nú er sá tími kominn og því er rafbíllinn enn raunhæfari kostur sem aðalbíll á heimilið, sé hann það ekki nú þegar.
Orkunotkun bílsins var áþekk því sem gefið er upp frá framleiðanda og en hún var um 14,8 kWh á kílómetra. Taka verður með í reikninginn að milt var í veðri þá daga sem reynsluakstur fór fram og því var notkun á miðstöð í lágmarki. Samkvæmt Hyundai hefur verið lögð rík áhersla á að rauntímaútreikningar á drægni rafhlöðunnar sem birtast ökumanni séu eins nákvæmir og hægt er með tilliti til fyrri orkunotkunar og aksturslags. Það er vissulega skref í rétta átt því að aðrir rafbílar hafa átt til að ýkja væntanlega drægni við upphaf aksturs. Hvorum megin á stýri eru flipar sem stýra E-bremsunni, þ.e. hversu mikil endurhleðsla er inn á rafhlöður 36
Skottið er 332 lítrar og hægt að stækka það í 1114 lítra með því að fella sætin niður. Auðvelt er að hlaða bílinn þar sem gólfið er grunnt og engin kantur.
8 tommu sneriskjár situr ofarlega á mælaborði og því auðvelt er fyrir ökumann að líta á skjá við akstur.
Bíllinn er góður í umgengni og, eins og áður segir, var áseta og útsýni einstaklega gott. Hann er sportlegur í útliti með háa veghæð. Þetta væri ekki mitt fyrsta val ef ég væri í leit að bíl með stórt skott og rými fyrir alla í fjölskyldunni en að öðru leyti er hann álitlegur kostur. Forvitnilegt væri að sjá á hvaða verði væri hægt að bjóða bílinn með minna af búnaði og 39 kWh. rafhlöðu. Taka má fram að stór rafhlaða er ekki endilega öll sagan, heldur hvernig notkun bíllinn er hugsaður fyrir. Þegar aðallega á að aka innanbæjar
og mögulega allt að 100 kílómetra radíus frá heimili er minni rafhlaða jafnvel betri kostur þar sem hún er ódýrari og léttari. Fyrir þá sem eru í kauphugleiðingum eða eiga rafmagnsbíl vil ég ítreka mikilvægi þess að tryggja réttan frágang á hleðsluköplum og snúrum. Nú eru rafhlöður að verða yfir fjórfaldar að stærð miðað við fyrstu rafmagnsbílana og því er hleðslutími orðinn óhemjulangur á heimiliskló ásamt aukinni hitamyndun og eldhættu. Því er mælt með því við
alla rafbílaeigendur að fjárfesta í hleðslustöð við heimilið og fá fagmann við uppsetningu. Björn Kristjánsson
Hyundai Kona EV Premium 64 kWh Aflrás: Rafmótor
Eiginþyngd: 1.685 kg
Hámarksafl: 204 hö. Hámarkstog: 395 Nm.
Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.180 / 1.800 (með speglum) / 1.570
Verð: 5.490.000 kr.
Veghæð (mm): 157 mm
Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 14,3 KWh/100km (blandaður akstur)
Aðfallshorn / Fríhorn / Fráfallshorn: 30,9°/ 25,7° / 29,9°
Eldsneytisnotkun (raunakstur): 15,3 KWh/100 km (blandaður akstur) Losun CO2: 0 g/km
• Staðalbúnaður • Akstursstaða • Skottstærð • Pláss í aftursæti 37
Reynsluakstur Kia e-Niro Ekki verður annað sagt en að reynsluakstur af rafútgáfu Kio Niro EV hafi komið skemmtilega á óvart. Bíllinn sjálfur stígur kannski ekki við fyrstu sýn en þegar maður er sestur undir stýri og ekur honum við mismundi aðstæður koma í ljós eiginleikarnir sem bíllinn býr yfir. Bíllinn er mjúkur og í raun ótrúlega snöggur af heimilisbíl að kalla. Í ljós kom hversu mjúkur hann er þegar farið var yfir hraðahindranir og í holur. Bíllinn brást við þessum aðstæðum nákvæmlega eins og maður vill að hann geri. Hvað kraftinn viðkemur stóðust upplýsingar fyllilega en hann var tæpar átta sekúndur í hundraðið en það segir sína sögu. Drægi Kia Niro er með því lengsta sem í boði er af rafbílum sem komnir eru á markað í dag. Uppgefið drægi er 455 km en við aðstæður hér á landi má ætla að það sé eitthvað minna,
38
líklega undir 400 km. Engu að síður hefur bíllinn komist til Akureyrar á einni hleðslu en það verður að kallast harla gott og flott frammistaða. Til að komast þessa vegalengd, sem er um 370 km frá Reykjavík, þarf sterka og stóra rafhlöðu. Í þessum bíl vegur hún 450 kg en heildarþyngd bílsins er um 1800 kg. Henni er komið undir gólfinu og fyrir vikið verður þyngdarpunkturinn lægri og um leið liggur bíllinn mun betur á veginum. Skilar rúmlega 200 hestöflum Kia Niro EV er með nýjum og tæknivæddum 64 kWh lithium rafhlöðupakka sem skilar bílnum rúmlega 200 hestöflum. Bíllinn mun einnig vera fáanlegur í útfærslu þar sem drægnin er 289 km og er með 39,2 kWh lithium rafhlöðu. Sá bíll verður með rafmótor upp á 150 hestöfl. Kia Niro EV er með engan útblástur þannig að um er að ræða bæði afar umhverfisvænan og og
hagkvæman bíl. Þetta er annar hreini rafbíllinn sem Kia framleiðir en fyrir er rafbíllinn Kia Soul EV. Kia Niro EV er hannaður í hönnunarstöðvum Kia í Kaliforníu og Namyang í SuðurKóreu. Hann er fyrsti rafbíllinn í Crossover flokknum. Rafmótorinn skilar alls 204 hestöflum og 395 Nm í togi. Bíllinn er framhjóladrifinn eins og Niro Hybrid og Plug-in Hybrid. Bíllinn var upphaflega kynntur sem Niro EV á bílasýningunni í Busan í Suður-Kóreu síðasta sumar en nafni hans hefur verið breytt í e-Niro fyrir evrópskan markað. Gott rými Eins og áður kom fram býr Kia Niro yfir mörgum kostum. Plássið í bílnum er gott og vel fer um ökumann og farþega bæði framan til og í aftursætum. Farangursrýmið er ágætt en mætti vera stærra
Gott útsýni yfir veginn Sætin liggja nokkuð hátt og af þeim sökum er gott útsýni yfir veginn. Í keyrslu kom enn fremur á óvart hversu bíllinn er hljóðlátur og það verður að kallast mikill kostur. Margir ökumenn kannast við veghljóð sem verður stundum svo mikið að óþægilegt er að hlusta á útvarp. Kia Niro er alveg laus við þennan hvimleiða galla og kemur það bílnum á hærra stall. Kia Niro býr yfir góðu öryggiskerfi og má í því sambandi nefna að það heldur fyrirfram ákveðinni fjarlægð á bíl fyrir framan og dregur úr hraða þegar við á, án aðstoðar ökumanns.
Enn fremur eru skynjarar, sem reyndar eru komnir í marga bíla, sem nema akreinamerkingar, svo að eitthvað sé nefnt. Kia Niro EV vakti samstundis mikla athygli þegar hann kom fyrst á markað. Bíllinn nýtur vinsælda og selst vel hvarvetna. Ísland er ekki undanskilið í þeim efnum. Kaup á rafbíl og hugleiðingar margra um næsta skref er ofarlega í huga hjá þeim sem kaupa bíl um þessar mundir. Margt er í boði í þeim efnum og tækninni fleygir fram. Bílarnir verða sífellt betri og drægi þeirra meira. Eftir reynsluakstur á Kia Niro verða kaup á slíkum bíl að teljast álitslegur kostur.
Kia e-Niro 64 kWh Aflrás: Rafmótor Hámarksafl: 204 hö. Hámarkstog: 395 Nm. Verð frá: 5.490.777 kr. Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 17,1 kWh/100 km (meðaleyðsla) Eldsneytisnotkun (raunakstur): 16,4 kWh/100 (meðaleyðsla) Losun CO2: 0 g/km Eiginþyngd: 1.737 - 1.91 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.375 / 1.805 (með speglum) / 1.570 Veghæð (mm): 155 • Fjöðrun • Útsýni • Rúmgóður
• Útlit
Ökumaður hefur góða yfirsýn við akstur og þá er auðvelt að nálgast flestar stillingar úr stýri.
39
Hjólbarðar Nú þegar sól er komin hátt á loft og snjórinn farinn úr fjöllunum eru vonandi flestir ökumenn komnir af nagladekkjum, enda eiga þeir sem aka á nöglum að sumri til von á háum sektum. Á hverju ári eru birtar fjöldi kannana og prófanir á dekkjum við ólíkar aðstæður en eru þau í raun svona misjöfn? Stutta svarið er já, því að himinn og haf geta verið á milli dekkjaframleiðenda og tegunda þrátt fyrir að dekkin líti öll svipað út og geri í grunninn sama gagn. Hér á eftir verður farið yfir nokkur atriði sem munu vonandi auðvelda kaupákvörðun á þessum gríðarlega stóra markaði. Mynstur
Bremsuvegalengd
Mynstur dekkja eru í sífelldri þróun og koma stærstu framleiðendur árlega fram með nýtt og endurbætt mynstur sem á ætíð að vera betra en árið á undan. Í grunninn er hægt að flokka eiginleika mynstra eftir því hversu gott grip dekkið hefur, hversu vel það ryður frá sér vatni, hver er núningsmótstaða þess og svo framvegis. Algengt er að stærri dekkjaframleiðendur séu með fleiri en eitt merki í boði og geta þeir því selt eldra mynstur áfram á lægra verði en undir öðru nafni.
Oft gleymist hversu mikilvæg dekk eru þegar kemur að hemlun þar sem þau eru eini snertiflötur bílsins við veginn. Í dekkjaprófunum hér á eftir kemur þetta skýrt fram þar sem hemlunarvegalengd úr 100 km/h niður í 0 var mæld. Þegar bifreið, sem ekur um á Continental Premium Contact 6 dekkjum, hefur stöðvast er samskonar bíll sem ekur á Goodride Radial dekkjum enn á 50 km/h. Því er nær óumflýanlegt að lenda á bílnum á undan. Því skal ávallt hafa það í huga að dekk eru einn veigamesti öryggisþáttur bílsins.
Sumar-, vetrar- og heilsársdekk Fyrir utan mynstur er stærsti munur á sumar- og vetrardekkjum í gúmmíblöndunni sjálfri. Því er stífara gúmmí í sumardekkjum og þola þau því betur akstur á heitum vegi en vetrardekkin eru mýkri og stífna ekki upp þrátt fyrir að ekið sé í kulda eins og sumardekkin myndu gera. Mjúkt gúmmí vetrardekkjanna gerir það að verkum að þau slitna mun hraðar við akstur á heitum vegi eða yfir fimm til sjö gráðum.
Sumardekk eru með munstur eftir endilöngu dekki
Vetrardekk hafa grófara mynstur sem sker þvert á dekkið
40
Til þess að halda hámarksgripi við akstur í ís og snjó þurfa vetrardekk að vera með gróft mynstur sem hleypir vatni auðveldlega undan dekkjunum. Þessi hönnun gerir það að verkum að núningsmótstaða verður meiri en á sumardekkjum sem eru hönnuð með mynstur eftir endilöngu dekki en ekki þvert á. Með aukinni mótstöðu eykst einnig eyðsla og veghljóð. Hér á undan hefur aðallega verið talað um vetrar- og sumardekk en eins og flestir vita er hægt að fara millileiðina með heilsársdekkjum. Þau reyna að sameina eiginleika sumarog vetrardekkja en þó verður ávallt einhver fórnarkostnaður hvað varðar grip í snjó eða núningsmótstöðu og grip á malbiki.
Flot Einnig getur reynst gagnlegt að kynna sér hversu mikla tilhneigingu dekkið á til með að fara á flot við akstur á blautum vegi, þ.e. hversu duglegt dekkið er að ryðja vatni frá og halda snertingu við veginn. Hér á landi myndast alloft dekkjarákir í malbikið af völdum sigs og slits en þær safna oft í sig vatni. Við þessar aðstæður getur verið auðvelt að missa stjórn á bílum ef þeir byrja að fljóta ofan á vatni og missa alla snertingu við veginn. Við þessar aðstæður hafa vetrar- og heilsársdekk yfirleitt vinninginn þar sem þau eru hönnuð sérstaklega til að ryðja frá sér miklu af vatni á stuttum tíma.
Þegar ekið er á lágum hraða nær mynstur dekkjanna að anna fráveitu á vatni.
Þegar hraðinn eykst byrjar það vatn sem dekkið riður á undan sér að safnast upp.
Þegar hraðinn er orðinn það mikill að dekkið nær ekki að losa sig við umfram vatn byrjar það að fljóta og missir snrertingu við götuna.
Ekki er allt gull sem glóir
Loftþrýstingur
Freistandi getur verið að spara fé og fjárfesta í notuðum dekkjum en ekki er allt gull sem glóir. Ástand dekkja er ekki alltaf sýnilegt fyrr en þau eru komin undir. Dekk getur lekið, verið vírslitið en lúmskasta vandamálið má oft finna í aldri dekkjanna. Gúmmíið í dekkjunum verður viðkvæmara með aldri og byrjar að morkna en það lýsir sér t.d. í litlum sprungum. á hliðum og eykur þetta hættu á að dekkið springi án nokkurs fyrirvara. Þá þornar gúmmíið upp og verður stífara með aldrinum og missir grip. Engar ákveðnar reglur gilda um aldur en þar spila inn í ytri aðstæður eins og notkun, geymsla, veðurfar og fleira. Að því sögðu má gefa sér að dekk sem eru á aldrinum sex til tíu ára séu orðin gömul og þurfi að endurnýja.
Það er alltof algengt að ökumenn sinni ekki reglulegu eftirliti með loftþrýsting á dekkjum bílsins. Dekk missa alla eiginleika ef þau eru ekki með réttan þrýsting og á skömmum tíma verða þau hættuleg hvað varðar grip og akstureiginleika. Dekk sem hafa of lágan þrýsting slitna mun hraðar og þá sérstaklega á köntunum, bíllinn missir tengingu við veginn, getur rásað til og bregst seint við þegar beygt er. Mikill hiti getur byggst upp getur leitt til þess að dekkið springi. Þá verður viðnám mun meira og skilar það sér í aukinni eldsneytiseyðslu. Hafi dekk of háan þrýsting bungar það meira út fyrir miðju sem skilar sér í slakari gripi og auknu sliti á miðju. Bíllinn verður hastari og allar ójöfnur og smásteinar verða greinilegri við akstur. Dekk verða mun viðkvæmari fyrir aðskotahlutum og geta hvellsprungið. Réttan þrýsting má finna í handbók bílsins og einnig inn í hurðastaf eða bensínloki. Hann er gefinn upp í tveimur mælieiningum sem er BAR eða PSI og er yfirleitt notast við síðarnefndu mælieininguna hér á landi eins og á loftmælum bensinstöðva. Loftþrýstingur er mismunandi milli bifreiða og spilar þar inn í stærð dekkja, tegund og þyngd bíls auk þess sem hleðsla getur skipt máli. Ekki er óvanalegt að sjá þrýsting í kringum 30–34 psi.
Þegar dekk eldast þornar gúmíið og litlar sprungur myndast og það missir eiginleika sinn
Á öllum dekkjum er framleiðslustimpill sem gefur til kynna hvenær dekkið er framleitt. Þetta er fjögurra stafa tala á hlið dekksins þar sem fyrstu tveir stafi segja til um framleiðsluviku og seinni tveir segja til um framleiðsluár. Mikilvægt er að gera sér
Í dag eru nær allir nýir bílar útbúnir loftþrýstingsskynjurum sem gefa til kynna ef dekkin tapa lofti. Oft á fólk í vandræðum með búnaðinn og kemur það jafnan í kjölfarið á dekkjaskiptum en oftar en ekki þarf þá að endurstilla mæla. Þetta þarf ekki að vera flókið ferli en hægt er að lesa um það í handbók bílsins. Þetta getur verið hnappur undir mælaborði eða inni í hanskahólfi. Þessir skynjarar eru með innbyggða rafhlöðu sem hefur ákveðinn líftíma og þarf að skipta skynjurunum út á fimm til tíu ára fresti. Þetta getur verið kostnaðarsamt eða um fimm til tíu þúsund krónur á hvert dekk og fer það eftir framleiðanda bílsins og hvort framleiðandi eða einhver annar hafi stimplað skynjarann. Mælt er með að skoða markaðinn hverju sinni.
Hægt er að sjá aldur dekkja þar sem fyrstu tveir stafir tákna standa fyrir viku 14 og seinni tveir árið 2011
grein fyrir því að aldur dekkja byrjar strax að telja þegar það kemur úr framleiðslu en ekki hvenær þau fara fyrst undir bíl. Því geta „ný“ tíu ára gömul dekk verið verri en ódýr ný dekk. Mismunandi er milli landa hversu meðvitaðir neytendur eru varðandi þessi mál en til dæmis í Þýskalandi er gefinn sérstakur afsláttur á dekkjum sem eru komin á aldur. 41
Rafmagnsbílar Nú þegar vinsældir rafmagnsbíla eru sífellt að aukast er gott að minnast aðeins á dekkjaval. Stærstu dekkjaframleiðendur heims keppast um að bjóða hjólbarða sem eru sérstaklega hannaðir fyrir rafbíla en þar er mikil áhersla lögð á lága núningsmótstöðu til að tryggja sem mesta drægni bílsins. Lágmarka þarf hávaða frá dekkjum þar sem rafbílar eru orðnir hljóðlátir og því er til mikils að vinna að draga úr veggný. Því er jafnvel enn mikilvægara fyrir rafbílaeigendur að vera meðvitaðir um loftþrýsting þar sem aukið viðnám kemur beint niður á drægni bílsins. Því er sérstaklega gott fyrir rafbílaeigendur að kynna sér dekkjamarkaðinn vel með tilliti til mótstöðu og það sama á við um val á felgum þar sem rafbílafelgur eru oft hannaðar með tilliti til þyngdar og vindmótstöðu. Felgur
Rafmagnsbíllinn BMW i3 kemur á 155/70R19R dekkjum sem þykja óvenju grönn og há miðað við aðra bíla. Með þessu nær BMW lægri núningsmótstöðu og minni veggný. Á móti fórna hönnuðirnir þáttum eins og gripi þar sem snertiflöturinn við veginn hefur minnkað.
Felgurnar á bílnum gegna ýmsum verkefnum öðrum en að halda dekkinu á sínum stað. Höfum í huga að stærri felgur þýða stærri og breiðari dekk sem þýðir aukið viðnám og aukna eyðslu. Með auknu viðnámi eykst einnig veghljóð. Þá eru stærri dekk yfirleitt með lægri hæð eða „bana“ sem gerir bílinn stífari og ójöfnur verða greinilegri í honum. Þó er ekki allt slæmt við stærri felgur og dekk, bíllinn bregst betur við í stýri, heldur betra gripi og snertingu við veginn og um leið getur dregið úr bremsuvegalengd. Þá þola dekkin betur hraðbrautaakstur til lengri tíma og einnig er bíllinn miklu „flottari“. Lesið í tölurnar Fjöldi upplýsinga eru stimplaðar í dekkið og við fyrstu sýn nær óskiljanlegar. Á skýringar myndinni hér að neðan er farið yfir helstu merkingarnar. Fyrst er tekin fram breidd á dekkinu en hún er 205 mm. Síðan kemur hæð dekksins en hún er gefin upp sem prósentu hlutfall af breiddinni eða 55% af 205 mm. Næst kemur bókstafurinn R sem segir til um að dekkið sem vírofið eða “radíal” í daglegu tali. Næst kemur talan 16 sem stendur fyrir hversu stór felgan þarf að vera fyrir tiltekið dekk. Loks er gefin upp talan 91 sem er hámarkshleðsla á hvert dekk eða 615 kg. (sjá töflu). Seinast kemur stafurinn V sem táknar hversu mikinn aksturshraða dekkið þolir eða allt að 240 km/h. (sjá töflu.)
42
Sumardekkjakönnun 2019 Svona eru dekkin prófuð Gæðamunur dekkja kemur best fram við akstur á blautum vegi. Undir þeim kringumstæðum verða skilin hvað skýrust á milli öruggra hjólbarðaog þeirra sem búa yfir minna öryggi. Þetta kemur fram í nýrri gæða- og öryggiskönnun á sumarhjólbörðum 2019. Könnunni leiðir ennfremur í ljós að dýrari vörumerkin reynast yfirleitt öruggari en ódýrari dekk geta stundum verið góð kaup . Eins og jafnan áður er dekkjakönnunin unnin af Motor, félagsblaði hins norska systurfélags FÍB; NAF í samvinnu við TestWorld. Dekkjakönnunin nær til 14 tegunda nýrra sumarhjólbarða og fór fram á tilraunaaksturssvæði í suðurFrakklandi. Allir hjólbarðarnir eru af sömu stærð sem er 205/55 R16. Allir eru prófaðir undir sama bílnum sem er af tegundinni VW Golf 1,4 TSI. Hemlun Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mjög mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna er vægi aksturs og hemlunar í bleytu þyngst. Við hemlaprófanir í bleytunni var loftstig +10-15 gráður en á þurru malbiki var hitinn +20-25 gráður. Hver hjólbarði er prófaður margsinnis á nokkra daga tímabili til að ná fram ábyggilegustu mynd sem og raunhæfastan samanburð á eiginleikum hjólbarðanna. Brýnt er og vert að hafa í huga að mikilvægustu eiginleikar sumarhjólbarða eru tengdir bleytunni og eru sem styst hemlunarvegalengd, sérstaklega í bleytu, góð ráðfesta, tryggt veggrip í beygjum og sem minnst hætta á flotun.
Veggrip
Veggnýr
Veggrip hjólbarðanna er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri akstursbraut. Aksturinn og mælingarnar eru marg endurteknar og annast nokkrir ökumenn aksturinn í könnunni. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautartímamælinga.
Veggnýr er bæði mældur með mælitækjum og metinn af ökumönnum. Ekið er eftir vegi með grófu vegyfirborði. Ökumenn í könnunni vita ekki hvaða hjólbarðategund er undir bílnum hverju sinni.
Flotun Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar veggrip hefur algerlega tapast, er skráður. Aksturstilfinning Margir tilraunaökumenn meta hver fyrir sig hvernig hver hjólbarðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og í ýmsum mismunandi akstursaðstæðum, eins og hvað gerist þegar bíllinn skrikar og hvernig gerist .að og hversu erfitt eða létt er að ná fullri stjórn á bílnum. Hafa verður í huga að slíkar aðstæður koma oft upp í akstri í umferðinni. Um er að ræða blindpróf, eða með öðrum orðum þá vita ökumenn ekki hvaða hjólbarðategund er undir bílnum.
Núningsmótstaða Núningsmótstaða hjólbarðanna er mæld í sérstökum tækjabúnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnsta mótstöðu (rennur lengst). Einkunnin er útreiknuð aukin eldsneytiseyðsla. Kannaðu verð áður en þú kaupir Þegar þú hefur fundið þá tegund sumarhjólbarða sem þú telur hæfa sem best, skaltu hringja og kanna verð hjá nokkrum söluaðilum eða á hjólbarðaverkstæðum. Sú könnun gæti hæglega sparað kaupandanum ófáar krónur. Ennfremur er félagsmönnum í FÍB að skoða möguleg afsláttarkjör í formi FÍBafsláttar sem getur numið 10-15%.
43
Dýr sumardekk 1 Continental PremiumContact 6 Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk: Hemlun í bleytu
V(240 km/h) 91 (615 kg) 20. vika 2018 Þýskaland
12
Akstursgrip í bleytu 10
80 STIG
2
79 STIG
Nokian Hakka Blue 2
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:
Hemlun á þurru
10
Hemlun í bleytu
V(240 km/h) 94 (670 kg) 25. vika 2018 Finnland
12
Hemlun á þurru
6
Akstur á þurru
10
Akstursgrip í bleytu
8
Akstur á þurru
6
Akstur í bleytu
15
Eldsneytis eyðsla
8
Akstur í bleytu
15
Eldsneytis eyðsla
6
Flot á dekkjum
4
Veggnýr
4
Flot á dekkjum
10
Veggnýr
3
Svig í bleytu
4
Þægindi
3
Svig í bleytu
10
Þægindi
3
Nýjasta PC6 Continental dekkið er minna um sig en fyrirrenni þess, sportlegri hönnun og stærri snertiflöt. PC6 skilar bestu gripi allra dekkja sem voru prófuð jafnt á þurrum eða blautum vegi. Dekkið lætur vel af stjórn og stöðvar bílinn hratt og örugglega sérstaklega á þurrum vegi. Þegar kemur að akstri í vatni stendur dekkið sig einna verst jafnt í beygjum og beinum akstri. Þessi ókostur kostaði dekkið næstum fyrsta sætið í prófunum. Gott grip við hemlun, þægindi og lágvært innsiglaði hins vegar sigurinn.
3
Dunlop Sport Bluresponse
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
V(240 km/h) 91 (615 kg) 33. vika 2018 Þýskaland
77 STIG
Finnska dekkið stóð sig best á blautum vegi með gott grip þrátt fyrir vatnselg og stutta bremsuvegalengd og gott grip til hliðanna. Dekkið er auðvelt í akstri og fyrirsjáanlegt í akstri. Nokian Hakke Blue 2 skorar ekki vel þegar kemur að akstri á þurru malbiki. Hefur bæði lengri bremsuvegalengd og er í mýkri kantinum þegar kemur að akstri undir álagi eins og í beygjum. Þá mældist það með hæðstu eyðslumælingu af dekkjunum átta í þessu prófi.
3
77 STIG
Firestone Roadhawk
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
V(240 km/h) 91 (615 kg) 3. vika 2018 Ungverjaland
Hemlun í bleytu
9
Hemlun á þurru
8
Hemlun í bleytu
12
Hemlun á þurru
8
Akstursgrip í bleytu
8
Akstur á þurru
8
Akstursgrip í bleytu
8
Akstur á þurru
10
Akstur í bleytu
12
Eldsneytis eyðsla
8
Akstur í bleytu
12
Eldsneytis eyðsla
8
Flot á dekkjum
8
Veggnýr
4
Flot á dekkjum
8
Veggnýr
2
Svig í bleytu
8
Þægindi
4
Svig í bleytu
6
Þægindi
3
Dunlop er systur merki Goodyear. Sport BluResponse stóð sig almennt vel í gegnum öll prófin. Þrátt fyrir að taka aldrei topp sætið þá var dekkið ávallt með efstu dekkjum í öllum prófunum. Eini þátturinn sem dekkið náði einungis meðalskori var hemlun á blautum vegi. Dunlop dekkin stóðu sig betur í beygjum heldur en Goodyear dekkið en viðbragð var samt sem áður ekki jafn gott og bestu dekkin í prófunum sem þýddi að taka þurfti skarpari beygjur en ella. Dekkið fer átakalaust yfir hindranir og er hljóðlátara en Goodyear. Heilt yfir eru þetta góð dekk með engan augljósan veikleika og vermir því þriðja sæti. 44
Fleiri próf og upplýsi á FÍB.is
Ameríska merkið Firestone er í eigu Bridgestone í Japan og deila þeir með sér ýmsum einkennum eins og að hafa gott grip til hliða og gott viðbragð í stýringu. Roadhawk dekkið er ekki jafn mjúkt í akstri eins og Bridgestone dekkið. Það er kvikara í akstri á þurru malbiki en í bleytu vill afturendi bílsins missa grip. Þá er eldsneytis eyðsla í hærra lagi miðað við önnur dekk. Dekkið stendur sig vel í blautum akstri og gott þol áður en það byrjar að fljóta í vatni. Veikleikar eru helst lágtíðni hljóð í akstri eins og með Bridgestone dekkið. Á heildina litið kom Roadhawk skemmtilega á óvart og á því fullt erindi að deila þriðja sæti með Dunlop.
5
72 STIG
Michelin Primacy 4
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk Hemlun í bleytu
V(240 km/h) 91 (615 kg) 14. vika 2018 Ítalía N1 17.990 krónur 15
Hemlun á þurru
6
Goodyear Efficientgrip Performance
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
V(240 km/h) 91 (615 kg) 32. vika 2018 Þýskaland Klettur 17.900 krónur
8
Hemlun í bleytu
12
Hemlun á þurru
6
6
Akstur á þurru
6
Akstursgrip í bleytu
6
Akstur á þurru
6
Akstursgrip í bleytu
Akstur í bleytu
9
Eldsneytis eyðsla
8
Akstur í bleytu
9
Eldsneytis eyðsla
10
8
Veggnýr
2
8
Þægindi
4
Flot á dekkjum
10
Veggnýr
2
Flot á dekkjum
Svig í bleytu
6
Þægindi
2
Svig í bleytu
ófanir ýsingar B.is
Fjórða kynslóð Primacy frá Michelin er kynnt sem endingargóð dekk þar sem hámarks grip er tryggt út allan líftíma dekksins. Primacy 4 stendur sig vel þegar kemur að hemlun á blautum vegi og ryður vel frá sér vatni. Þá fær það ágætis einkunn þegar kemur að bremsuvegalengd á þurru malbiki. Dekkið stendur sig ekki nægjanlega vel þegar kemur að akstri í beygjum og skortir uppá grip til hliðanna. Það er samt öruggt og þægilegt í akstri þrátt fyrir skort á gripi. Michelin vermir því fimmta sætið.
7
Bridgestone Turanze T005
69 STIG
EfficentGrip hefur margar styrkleika en ýmsir veikleikar koma þar upp á móti. Styrkurinn felst í lágri eldsneytiseyðslu og fer seint að fljóta í vatns akstri. Þá hefur dekkið stutta bremsuvegalengd í bleytu. Hins vegar koma veikleikar í ljós þegar kemur að akstri við þurrar aðstæður. Slakt grip til hliða og skortur á nákvæmni í stýri. Veikleikar dekksins eru óþarfleg mýkt og mikil undirstýring. Bremsuvegalengd á þurru malbiki er sú lengsta af öllum dekkjunum sem voru prófuð. Þessi munur milli styrk og veikleika skilaði dekkinu í sjötta sæti.
8
60 STIG
Vetrardekk
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
V(240 km/h) 91 (615 kg) 16. vika 2018 Ungverjaland Betra Grip 20.903 krónur
Hemlun í bleytu
6
Hemlun á þurru
8
Hemlun í bleytu
9
Hemlun á þurru
2
Akstursgrip í bleytu
8
Akstur á þurru
8
Akstursgrip í bleytu
6
Akstur á þurru
4
Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk
H(210 km/h) 91 (615 kg) 39. vika 2017
Akstur í bleytu
12
Eldsneytis eyðsla
10
Akstur í bleytu
6
Eldsneytis eyðsla
6
Flot á dekkjum
6
Veggnýr
2
Flot á dekkjum
10
Veggnýr
5
Svig í bleytu
6
Þægindi
3
Svig í bleytu
8
Þægindi
4
Með þessari seinustu kynslóð af Turanza hefur stærsti dekkjaframleiðandi heims kynnt gott akstursdekk sem nýtur sín best í beygjum. T005 svarar vel í beygjum og stendur sig almennt vel jafnt í þurru og blautu. Þrátt fyrir að vera með eina bestu hemlun á þurru malbiki þá verður hún ein sú versta í prófinu þegar vatni er bætt við. Dekkið er í meðallagi þegar kemur að vatnsfloti og hefur tilhneigingu til að framkalla lágtíðni hljóð á ákveðnum hraða. Þetta er góður valkostur fyrir þá sem hafa gaman að krefjandi og hröðum akstri en á heildina litið nær það ekki hærra en sjöunda sæti.
71 STIG
Vetrardekkið er sniðið að blautum vetraraðstæðum. Því skoraði dekkið ágætlega í ákveðnum prófum sem snéru að blautum aðstæðum. Hönnun dekksins gerir það að verkum að það ryður frá sér vatni og fer á síður á flot. Þá er hliðargrip og bremsuvegalengd á blautum vegi ásættanlega. Þegar kemur að akstri undir álagi þá skortir vetrardekkið þann stöðugleika sem sumardekkin hafa. Á þurru malbiki þá eykst bremsuvegalengdin til muna og verður beinlínis hættulega í þungri sumarumferð.
45
Viðtal við Ævar Friðriksson tækniráðgjafa FÍB
,,Mér leið afskaplega vel í starfi hjá FÍB“ „Það réði því hrein tilviljunin ein að ég hóf störf hjá FÍB 1982. Ég var að hætta í vinnu sem ég var í á þessum tíma en var reyndar Ævar Friðriksson byrjaður þá í ökukennslunni. Mér fannst hins vegar gott að hafa eitthvað annað samhliða og þá ekki síst upp á félagsskapinn að gera. Mér leið afskaplega vel í starfi hjá FÍB og þegar upp var staðið urðu árin þar alls 36,“ sagði Ævar Friðriksson sem nýverið hefur látið af störfum sem tækniráðgjafi hjá FÍB. Ævar er lærður bifvélavirki og sagði hann þegar við settumst niður með honum á dögunum ekki almennilega vitað hvað hefði ráðið þeirri ákvörðun. Ætli það hafi ekki bara verið ein af þessum tilviljunum í lífinu. Hann sagði bara hreint út ekki hafa haft neinn sérstakan áhuga á bílum. ,,Mér finnst hlutverk bílsins vera að koma okkur á milli staða á sem hagkvæmasta hátt. Svo einfalt er það,“ sagði Ævar í spjallinu við FÍB-blaðið. Ævar fæddist á Siglufirði snemma árs 1948 og um 1965 hóf hann að stunda sjómennsku og sinnti því starfi víða um nokkra hríð. Hann hóf að vinna hjá Heklu þegar námi í Iðnskólanum lauk og starfaði þar í 13 ár. Sjómennskan togaði í hann á nýjan leik og fór svo að hann bætti einu ári við á þeim vettvangi. Hann kom í land og hóf störf sem ökukennari. „Eins ótrúlega og það hljómar kviknaði áhugi minn á bílum í raun og veru aldrei. Ég hóf störf í bílgreinum án þess að vita ástæðuna fyrir því. Það má segja að lífið sé bara endalausar tilviljanir,“ sagði Ævar.
ekki er nú þegar orðnir félagsmenn í FÍB ættu að taka það til alvarlegrar athugunar.
verður bara að segjast eins og er að búnaðurinn í flestum bílum góður og bilar ekki,“ sagði Ævar.
,,Þegar maður lítur um öxl þá var tíminn hjá FÍB góður og ég á þaðan góðar minningar. Bara lífið sjálft er búið að vera fínt og ég er sáttur. Ég minnist verunnar í FÍB með hlýjum hug. Þar vinnur gott gott fólk og það hefur verið gefandi að fá tækifæri að vinna með því“ sagði Ævar.
Ævar sagði erfitt að spá fyrir um það í dag hvort rafbílavæðingin verði endilega ofan á þegar fram í sækir. Það gæti alveg farið svo að rafbílavæðingin yrði ekki með þeim hætti sem spáð er eftir fimm ár. Vetni gæti verið komið í staðinn eða einhver annar orkugjafi sem við sjáum jafnvel að ekki að sé til staðar í dag. Ævar sagði og lagði áherslu á að erfitt væri að vera spámaður í þessum efnum.
Nú eru að eiga sé sér miklar breytingar hvað bíla áhrærir og rafmagnsbílar að ryðja sér til rúms. Jarðefnaeldsneytisbílar hverfa smám saman af götunum. „Þetta umhverfi hefur verið að taka gífurlegum breytingum um langa hríð. Þegar ég er að hefja störf á þessum vettvangi eru bensínkerfin þá þegar tölvustýrð. Þetta var búnaðar sem var ekki sérlega sterkur í upphafi og maður var ekkert æstur að ráðleggja sínum nánustu að kaupa bíla með tölvu. Þetta var líka kerfi sem átti það til að bila nokkuð. Núverandi tækni er aftur á móti búin að gera kraftaverk í því sem lítur að eyðslu, nýtingu á eldsneyti og minni mengun. Samhliða öllum framförum fylgja brekkur sem mönnum tekst að vinna þegar upp er staðið. Það
Hvað í bílgreininni finnst þér hafa tekið mestu breytingum frá því að þú varst ungur maður? „Þetta er öll þessi töluvæðing á allri eldsneytisbrennslunni þegar maður lítur 30 ár aftur í tímann. Það veit engin hver þróunin verður og það er mitt persónulegt mat að við eigum ekki að setja of mikið fjármagn í þessa þróun hér á landi. Að dempa öllu í rafmagn með tilheyrandi kostnaði og eftirgjöfum á gjöldum fyrir þessi fyrirtæki. Á endanum verða alltaf einhverjir að borga fyrir vegina. Heilbrigð skynsemi segir flestum í dag að almenningssamgöngur spara þar tíma fyrst og fremst. Ef Borgarlínan umtalaða á að spara tíma er stærsta
Ævar segir að árin hjá FÍB hafi verið gefandi og afskaplega skemmtileg. FÍB er góður málsvari bifreiðaeigenda og vinnur heilt yfir að góðum málum félagsmönnum til hagsbóta. Þeir sem 46
Ævar lét nýverið störfum eftir að hafa sinnt tækniráðgjöf hjá FÍB í 36 ár.
málið að koma henni á koppinn. Kannski er verið að fara of langt í því að tölvuvæða allt í bílnum. Það kemur að því að þegar þessi bílar eldast verða þeir erfiðir í viðhaldi. Tengingar og tölvur fara að gefa sig en þessir íhlutir eru dýrir og oft erfitt að eiga við þá. Þegar verkstæðisvinnan er komin upp í yfir 20 þúsund krónur á tímann þá öfundar maður ekki fólk sem þarf að setja bílana sína inn á verkstæði til að leita jafnvel af bilunum í marga daga,“ segir Ævar. Það hlýtur ýmislegt hafa á dagana drifið í störfum þínum fyrir FÍB og mörg mál komið inn á borð til úrlausnar, ekki satt? ,,Þetta starf snýst mikið um það að fólk er óánægt með bíla sem eru að bila og þá jafnvel rétt komnir út fyrir ábyrgð. Maður hefur horft á það í gegnum tíðina að gefinn er upp ákveðinn endingartími á tímagírsbúnaði, keðjum og tímareimum. Það kemur síðan á daginn að þetta stenst engan veginn. Hafa komið framleiðendur, jafnvel sömu framleiðendur, ár eftir ár sem eru með allt niðrum sig í sambandi við tímagírsbúnað svo að eitthvað sé nefnt. Þetta er eiginlega búið að vera sorglegt ferli á meðan aðrir eru með þetta nánast alltaf í fínu lagi. Þegar fólk er að kaupa sér nýja bíla þá er það ekkert að hugsa um þetta. Miklu frekar að máta sig inn í bílinn, hvernig hann er hljóðeinangraður og ýmislegt annað sem það tekur fram yfir. Þeir sem fara varlega og eru skynsamir við kaup á bílum, sérstaklega notuðum bílum, geta komist býsna vel frá því ef þeir velja réttu tegundirnar. Síðan skiptir máli að láta skoða vel hvað verið er að kaupa því öll eintök af bílum geta verið misgóð. Þeir eru búnir að fá slæma umhirðu, og jafnvel lent í tjónum sem að eru ekki auðsjáanleg nema bílarnir séu teknir í skoðun. Fólk sumt stundar ákveðna áhættuhegðun í sambandi við kaup á bílum. Ég get nefnt í því sambandi fólk sem ætlar að kaupa sér bíl vegna þess að það þarf koma börnunum sínum í leikskóla og það þarf að komast sjálft í vinnuna. Það kaupir sér eldgamlann Rolls Royce því það vill fá svo stóran bíl til þess að vera svo öruggt í umferðinni.
“Ef vélin fær það viðhald sem hún þarf, er smurð reglulega og lendir ekki í yfirsnúningi, þá endast vélarnar alveg ótrúlega vel. Góð umhirða skiptir öllu máli “
Maður kaupir ekki gamlan Rolls Roys til að keyra börnunum á leikskólann heldur miklu heldur vegna þess að viðkomandi er bílaáhugamaður og hefur áhuga að setja mikla vinnu og peninga í bílinn. Annars kaupir maður sér lítinn hagkvæman bíl og eins öruggan og hægt er í rekstri,“ segir Ævar. Þegar Ævar spurður að hvort honum finnst bílar betri og öruggari í dag en þeir voru áður segir Ævar að þegar hann var að byrja þótti Volkswagen bjallan algjör haugur í viðhaldi miðað við það sem bílarnir eru í dag. Mörgum þótti þetta fínir bílar en það var endalaust „pillerí“ í þessu eins og Ævar komst að orði. „Svo er heldur kannski ekki alveg hægt að bera þetta saman vegna þess að á þessum árum voru vegirnir þannig að t.d. bíll sem keyrði hringveginn var með ónýta dempara að honum loknum. Ég keyri sjálfur þokkalega mikið en aldrei skiptir maður um dempara, þeir bila einfaldlega ekki ef keyrt er varlega eins og yfir hraðahindranir. Eins ef vélin fær það viðhald sem hún þarf, er smurð reglulega og lendir ekki í yfirsnúningi, þá endast vélarnar alveg ótrúlega vel. Góð umhirða skiptir öllu máli og hinu má ekki heldur gleyma að vélarnar eru bara miklu betri en þær voru. Það er ekki hægt að bera saman slithluti í stýri og dempara
saman við það sem var hér á árum áður. Þar skiptir miklu máli einnig hvað vegirnir eru mun betri en þeir voru,“ segir Ævar. Myndir þú velja það í dag að fara í störf í bílgreininni ef þú værir ungur maður? „Því ekki. Það er margt athyglisvert í boði og nám í þessu fagi er spennandi. Ég er mjög stoltur af því að hafa unnið margt í gegnum tíðina. Ég er búinn að vinna við gerð tveggja jarðgangna, mikið á sjó, unnið sveitarstörf og öll þessi störf hafa menntað mig upp og þroskað. Bifvélavirkjun er krefjandi starf, ekki síður í dag, og það getur tekið óhemju langan tíma að finna bilun í vél í dag. Sá sem að þarf að borga reikninginn finnst stundum hann hlunnfarinn þótt alls ekki sé verið að gera það. Menn reyna að alltaf að gera sitt besta, það er ég alveg viss um.“ Ævar sagði að þegar hann liti yfir farinn veg væri hann mjög sáttur. Það sem stendur upp í lífinu, ekki bara hjá mér heldur öllum, er heilsan. Vera hraustur og líða vel í eigin skinni. „Umhverfið, fjölskyldan og þeir sem standa manni næst, líði sem best er ofarlega í mínum huga. Aðrir hlutir eru svona bara til hliðar,“ segir Ævar Friðriksson, fyrrum tækniráðgjafi FÍB, sem núverið lét af störfum eftir 36 ár starf fyrir FÍB. 47
Góð umhirða á lakkinu eykur verðgildi bílsins Það er alltaf meira að gera á sumrin en aðra tíma ársins. Auðvitað er jafn mikilvægt að hugsa vel um bílana sína á veturna. Malbiki blæðir meira á sumrin og tjara sest á bílana og þarf nauðsynlega að þrífa hana í burt. Á veturna eyðileggur saltið bæði vegina og lakkið á bílunum,“ sagði Stefán Smári Ásmundarson hjá Bónfeðgum á Selfossi en hann hefur rekið fyrirtækið í átta ár. Hann hefur verið viðloðandi bónþjónustu frá því að hann fékk bílprófið. Stefán Smári sagði nauðsynlegt að hugsa vel um bílinn allt árið. Hann sagði að Bónfeðgar ættu fastan hóp viðskiptavina, bæði einstaklinga og fyrirtæki. Það væri nóg að gera en alltaf væri hægt að bæta við viðskiptavinum. „Við finnum greinilega fyrir því að fólk leggur mun meira upp úr því að hugsa vel um bílana sína en áður var. Það er meiri vakning í þessum efnum því að fólk kaupir dýra bíla og hugsar betur um þá eftir því sem fjárfestingin er meiri. Við erum farnir að selja dýrari meðferðir sem felast m.a. í því að við setjum svokallaða kermikhúðun á lakkið. Í því felst langtímalausn sem á að duga frá fimm árum upp í níu ár. Þess á milli þarf að líta eftir bílnum og koma með hann til okkar einu sinni á ári. Í raun þarf aldrei að bóna bílinn og er þessi meðferð alltaf að verða vinsælli. Margir aðilar eru farnir að bjóða upp á hana. Hún er aðeins boðin fram af þeim aðilum sem hafa tiltekin leyfi til kermikhúðunar,“ sagði Stefán Smári í viðtali við FÍB-blaðið. Hér fyrir neðan má sjá nokkur atriði sem vert er að hafa í huga við umhirðu bílsins: Þvottur Með reglubundnum þvotti og góðri umhirðu endist bíllinn mun lengur og verður síður ryði að bráð. Byrjið á að spúla bílinn vel. Best er að nota háþrýstiþvottatæki en einnig er hægt að notast við vatnsslöngu með bunustilli. Varast ber að nota of mikinn vatnsþrýsting á lista umhverfis glugga. Æskilegt er að þvo undirvagninn sérstaklega á þeim landsvæðum þar sem vetrarsöltun er viðvarandi. Spúla þarf vel þar sem salt og aur geta setið, eins og undir brettaköntum og umhverfis hjól. Eftir veturinn er nauðsynlegt að þrífa salt- og tjöruagnir af lakkinu með affitandi hreinsiefnum. Rétt er að nota þessi efni eingöngu á þvottaplönum bensínstöðva en þar eiga að vera niðurföll með skiljum vegna óæskilegra leysiefna. Þegar búið er að skola vel eftir affitunina er gott að þrífa bílinn með sápulegi og volgu vatni. Byrjið á toppnum og vinnið ykkur niður og endið á felgum bílsins. Æskilegt er að skola bílinn vel og reglulega á meðan á sápuþvotti stendur. Gleymið ekki að þrífa vel innan í dyrakörmum og undir hurðum enda er þar oft hætta á ryði. Þurrkið bílinn að loknum þvotti með vaskaskinni eða gúmmísköfu, byrjið að ofan og haldið niður. Hreinsun að innan Takið yfirmotturnar úr bílnum og ryksugið bílinn að innan. Á flestum bensínstöðvum eru góðar og kraftmiklar ryksugur sem viðskiptavinir hafa aðgang að. Heimilisryksugur eru í flestum tilvikum ekki ætlaðar til notkunar utanhúss eða þar sem hætta er á raka. Mikilvægt er að teppi séu ekki 48
gráan grunn á bíla með ljósu lakki. Grunnurinn þarf oft um tvo klukkutíma til að þorna áður en hægt er að bera yfirlakkið á í samræmi við ráðleggingarnar hér að framan. Mikilvægt er að loka með yfirlakki sem fyrst þar sem raki getur fljótlega orsakað tæringu ef ryðgrunnurinn er einn til varnar. Bónun Það borgar sig að bóna bílinn reglulega. Lakkið fær fallegri glansáferð og bónið ver lakkið skemmdum. Það þolir meira álag og hrindir frá sér vatni. Auðveldara er að halda bílnum hreinum þar sem bónið dregur úr viðloðun óhreininda. Sé matt lakk á bílnum gæti þurft að fara yfir með massabóni. Bíllinn á að vera hreinn og bera massabónið á með hringstrokum og nudda vel. Massabón getur verið erfitt í meðförum og æskilegt er að bera aðeins á litla fleti í einu. Á eftir er flöturinn þurrkaður með hreinni tusku þar til gljáinn kemur fram.
blaut eða rök undir gúmmímottum. Raka verður að þerra upp til að hindra óæskilega lykt og myglu. Best væri að þurrka undir teppum en í flestum nýrri bílum er það illframkvæmanlegt. Gott húsráð er að setja gömul dagblöð undir gúmmímottur og draga rakan þannig úr teppum.
Að bóna bíl er frekar létt verk með tilkomu nýrra og meðfærilegra efna. Í flestum tilvikum er hægt að bera þunnt bónlag á allan bílinn í einu. Bónið þornar á lakkinu og myndar hvíta himnu sem auðvelt er að pússa af. Bónið aldrei í sterku sólarljósi til að forða því að bónið brenni inn í lakkið. Þessi einföldu ráð og tveir til þrír tímar í vinnu geta sparað verulega í viðhaldi, aukið öryggi og hækkað endursöluverð. Þetta bætir einnig samviskuna.
Þvoið rúður að innan með rúðuhreinsiefni og þrífið mælaborð, hurðarspjöld og annað inni í bílnum með rakri tusku. Hægt er að fríska upp á plast- og vínylhluti með sérstökum glansefnum. Minni lakkskemmdir Lítið steinkast getur valdið verulegum skemmdum á lakki og orsakað ryð ef ekkert er að gert. Lakkið er hluti af ryðvörn bílsins og mikilvægt að gera sem fyrst við minni lakkskemmdir til að fyrirbyggja ryðskemmdir á seinni stigum. Auðveldast er að gera við skemmdir sem aðeins hafa skaðað yfirborðslakkið en ekki náð niður í grunninn. Víða er hægt að kaupa rétta lakklitinn og bletta með pensli í sárin, m.a. hjá bílaumboðum og í bílabúðum. Sé lakkið í úðabrúsa er gott að úða lakki í lok brúsans og draga síðan með pensli. Berið nokkur þunn lög af málningu yfir skemmdina með mjóum pensli en forðist að klessa miklu efni í einu. Sé lakkskemmd umfangsmeiri verður að hreinsa laust lakk og ryð burt úr sárinu, t.d. með sandpappír eða beittum hníf. Losið ekki meira en þarf því að lakkið frá framleiðanda verndar bílinn best. Þegar búið er að hreinsa svæðið þarf að bera ryðvarnargrunn í sárið og gæta að því að þekja vel. Zinkgrunnur hefur góða ryðvarnareiginleika. Notið 49
Mér þótti mjög vænt um bílinn hennar ömmu Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona var kjörin íþróttamaður ársins 2018. Hún er aðeins sjöunda konan af alls 63 einstaklingum sem hlotið hafa nafnbótina Íþróttamaður ársins. Ellefu sinnum hefur fótboltafólk hlotið verðlaunin en Sara Björk er önnur fótboltakonan sem hlýtur þau á eftir Margréti Láru Viðarsdóttur sem var íþróttamaður ársins 2007.
Sara Björk Gunnarsdóttir á góðri stund í Heklu bílaumboðinu sem hún hefur verið í samstarfi við á undanförnum árum.
Sara Björk varð bæði þýskur meistari og bikarmeistari með Wolfsburg á árinu. Liðið fór alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en tapaði gegn franska stórliðinu Lyon. Í lok árs var hún valin 31. besta fótboltakona heims í árlegu vali enska dagblaðsins The Guardian. Þetta er í sjöunda sinn sem Sara Björk Gunnarsdóttir er á meðal tíu efstu í kjörinu. Hún varð í fjórða sæti 2011 og 2014, fimmta sæti 2017, sjötta sæti 2013 og 2016, og áttunda sæti 2015. Sara Björk svarar hér nokkrum spurningum sem við lögðum fyrir hana tengdum bílum. Fyrsti bíllinn sem þú eignaðist: Silfurlitaður Opel Astra frá ömmu minni!
Uppáhaldsbíllinn: Uppáhalds bílinn er Volkswagen Touareg.
Hvernig borgarðu bíllinn: Var búin að safna smá pening en síðan dílaði ég við afa.
Hefðir þú næg fjárráð, hvaða bíll yrði fyrir valinu: Er ekki með mikla bíladellu. Ég hef þó alltaf talið að Range Rover séu flottir bilar.
Manstu eftir fyrstu bílferðinni: Nei, eina sem ég man eftir var að fyrsti bílinn var sjálfskiptur. Ég var mjög ánægð með það þar sem ég þótti ömurleg að keyra beinskiptan. Hvað ertu búinn að eiga marga bíla: Ég hef nú bara átt einn bíl og það var bílinn hennar ömmu minnar. Síðan hef ég fengið bíl frá liðinu sem ég hef spilað með. Síðan á ég í samstarfi við Heklu bílaumboð og fæ alltaf Volkswagen frá því þegar ég er á landinu. Minnistæðasti bíllinn: Mér þótti mjög vænt um bílinn hennar ömmu.
50 Minnisstæðasti bíllinn - Opel Astra
Hversu mikilvægur er bíllinn í huga þínum: Bílinn er mikilvægur í huga mínum. Í umhverfi mínu er hann mjög mikilvægur! Skemmir ekki fyrir að fá að vera á flottum Volkswagen. Flottasti bíll sem þú hefur séð: Úff, erfitt. Ekki viss. Uppáhaldslitur á bíl: Svartur. Hefur þú prófað rafbíl: Nei, ekki enn.
Uppáhaldsbíllinn - Volkswagen Touareg
Næg fjárráð - Range Rover
Drægi bílsins minna en kom fram í upplýsingum Félagsmaður í tugi ára vildi koma á framfæri reynslu sinni af tengil tvinnbílnum Audi A3 e-tron hvað varðar drægi hans í kulda. Félagsmaðurinn kemur af Norðurlandi þar sem nokkuð kalt var í veðri síðasta vetur, stundum -10-15°. Þegar miðstöðin er notuð allan tímann skruppu þessir boðuðu 50 km saman í 10 til 15 km. Slíkt kemur að sjálfsögðu hvorki fram hjá seljanda, né framleiðanda. Enn sami háttur var á auglýsingum hvað þetta varðar hjá seljanda sem er Hekla í þessu tilviki.
Félagsmanninum finnst ekki sanngjarnt að hann sé að berjast í þessu en hann hefur keypt bíla frá umræddu bílaumboði í áratugi og alltaf fengið góða þjónustu.
Félagsmaðurinn veltir því fyrir sér hvort ekki þurfi að athuga neytendalög og hvort svona sölumennska sé lögbrot eður ei. Félagsmaðurinn telur að FÍB sé í þessu tilfelli rétti aðilinn til að fást við slíkt en ef það gengur ekki eru Neytendasamtökin sennilega næsti kostur.
Félagsmaðurinn segir ljóst að hann taki ekki einn að sér að sýna fram á geigandi auglýsingar sem er greinilega eru ætlaðar til að heilla kaupendur með hálfsannleika og fagurgala. Hann segist ekki vita hvernig neytendafélög
Bíllinn hafi að öðru leyti reynst vel og er tæknilega góður og af ,,betri gerðinni“. Hann telur samt að þessi sölumennska sé ekki bjóðandi og grunar að það sama gildi um öll umboðin sem selja hybrid-bíla eða rafdrifna.
taki á slíku en sannarlega sé kominn tími að rannsaka það. Lögbrot á neytendum sé ekkert nýtt og ótrúlegt hvað hægt sé að bjóða fólki áður en það telur sér misboðið. Hann segist eiga þá von í brjósti að þessi mál breytist til batnaðar en horfur þar á virðast ekki sérlega góðar.
51
,,Verð alltaf félagsmaður í FÍB þótt ég sé hættur að keyra“ Skoda. Þetta voru bestu bílar,“ segir Árni Valur sem á Suzuki-bíl í dag, 12 ára gamlan, sem hefur aldrei bilað.
Árni Valur Viggósson ásamt eiginkonu sinni Unni Þorsteinsdóttur.
Árni Valur Viggósson á Akureyri hefur verið félagsmaður í FÍB í marga áratugi. Faðir hans, Viggó Eyjólfsson, var bílaeftirlitsmaður um árabil og fór víða um land í störfum sínum. Árni Valur tók bílpróf 17 ára gamall á Raufarhöfn en þangað fluttist hann með foreldrum sínum fjögurra ára gamall. Hann fluttist aftur til Akureyrar 1954 og hefur búið þar síðan. Hann verður 89 ára á þessu ári en fyrir tveimur árum ákvað hann að hætta að keyra sjálfur. Sjón og heyrn hafði hrakað og í dag sér eiginkona hans, Unnur Þorsteinsdóttir, alfarið um aksturinn.
prýðis bílstjóri, þeir gerast varla betri. Það voru auðvitað mikil viðbrigði þegar maður gat ekki lengur keyrt. Þetta voru aðstæður sem ekki var horft framhjá, svona er lífið og maður verður að gera gott úr hlutunum. Ég verð alltaf félagsmaður og set FÍBmerkið á réttan stað á afturrúðunni eins alla jafnan,“ segir Árni Valur í spjalli við FÍB-blaðið á Akureyri á dögunum.
„Ég gerði alltaf við bílana mína sjálfur. Við getum sagt að það hafi verið meðfæddir hæfileikar að geta það og það hefur enn fremur komið sér afar vel í gegnum tíðina,“ segir Árni Valur. Eiginkona hans segir hann hafi gert við alla skapaða hluti enda sé hann mjög laghentur. Bílaáhugi Árna Vals náði langt en eitt sinn breytti hann Volkswagen rúgbrauði í húsbíl. Þau hjónin áttu hann í nokkur ár og fóru víða um land á honum. Þau segja að það hafi verið skemmtilegur tími, þau fóru víða og bíllinn reyndist vel í alla staði. Árni Valur er spurður að því hvort hann hafi íhugað að kaupa sér rafbíl. Hann er fljótur að svara og segist ekki hafa áhuga á því.
Árni Valur er rafvirki að mennt og vann lengstum hjá KEA, Ljósgjafanum, Slippnum og Símanum. Hann var ljósameistari hjá Leikfélagi Akureyrar í 25 ár. „Það hefur verið gott að vera félagsmaður í FÍB en ég hef að mestu leyti notið afsláttarkjara sem í boði hafa verið. Það veitir manni ákveðna öryggiskennd að vera félagsmaður og geta alltaf kallað eftir hjálp í ákveðnum vandræðum. Þótt ég hafi hætt akstri verð ég alltaf félagsmaður í FÍB. Ég sé enga ástæðu til að hætta þar, konan sér um aksturinn enda 52
VW rúgbrauð sem Árni Páll breytti í húsbíl og ferðaðist víða um landið.
Árni Valur segist alltaf hafa verið mikill bílaáhugamaður og lengstum átti hann Skoda. „Ég og Ingimar Eyda kepptust alltaf af því að að eiga
„Mér líst engu að síður mjög vel á þá, þessir bílar eru framtíðin og við verðum að hugsa um umhverfið sem við búum í,“ sagði Árni Valur í samtalinu við FÍB-blaðið.
Meira að gera með auknum straumi ferðamanna Bílabjörgun á Akureyri annast FÍB aðstoð á svæðinu og þar um kring. Fyrirtækið er leiðandi aðili í flutningum og björgun ökutækja á Norðurlandi. Hjá Bílabjörgun starfar einn starfsmaður í fullu starfi og hefur hann mikla reynslu af og þekkingu á bílabjörgun og flutningum. Bakvaktir og aðrar vaktir taka aðrir starfsmenn Car-x sem alla jafna sinna tjónaviðgerðum og skrifstofustörfum. Reynslumikið starfsfólk Bílabjörgunar aðstoðar fljótt og örugglega þegar kallið berst. Bílabjörgun hefur yfir að ráða þremur bílum: Izuzu með 5 tonna burðargetu og stóran pall-Chevrolet 2,5 tonna burðargetu AWD og meðalstóran pall, ásamt gleraugum að aftan fyrir auka bíl og Dodge Ram sem er notaður í að sinna vegaaðstoð, draga úr festu og koma mönnum milli staða.
Geymsluhúsnæð Bílabjörgunar er staðsett á Akureyri og er rúmgott um 300 m2 á stærð og er upphitað. Það getur tekið upp í 25 bíla í geymslu. Bíllinn þinn er í öruggri geymslu á meðan þú gengur frá þeim málum sem standa úti. Fyrirtækið leggur allt kapp á að lágmarka tjón á ökutækjum og ganga frá þeim í afar vandað geymsluhúsnæði að drætti loknum. „Það segir sig sjálft að með auknum straumi ferðamanna á Norðurlandi er meira að gera hjá okkur. Erlendir ferðammenn koma hingað í auknu mæli og þeir líta ekki síður til okkar eftir aðstoð. Umbeðin þjónusta er af ýmsum toga en keppikefli okkar er að hún sé fyrsta flokks. Nokkuð er um útköll um helgar í viðgerðir en flestir starfsmenn Bílabjörgunar eru bílvélavirkjar. „Það er gefandi að koma fólki í vanda til hjálpar,“ segir Gísli Pálsson hjá Bílabjörgun í spjalli við FÍB-blaðið á ferð blaðamanns um Norðurland.
53
Á að aka erlendis? Ekki gleyma alþjóðlega ökuskírteininu. Afgreitt samdægurs. Nánari upplýsingar á FÍB.is
54
Vantar
NÝJA lykla? Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Húslyklar Lyklakerfi Sílendrar
Láshús og fylgihlutir Peningaskápar Hurðapumpur
Skemmuvegi 4, Kóp. . www.las.is . s: 510 8888 . Opið alla virka daga 8-17
Notaðu afsláttinn í fríinu! Með því að sýna FÍB skírteinið hefur þú aðgang að fjölda afslátta á gististöðum og tjaldstæðum um land allt.
Nánar á FÍB.is 55
Varahlutir í bílinn Ve r ksmiðju á byrgð á þ í n u m b í l er tr y g g ð m eð vot t u ðu m va rah l u tu m f rá Sti l l i n g u
Smursíur
Rafgeymar
Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar
Tímareimar og vatnsdælur
Kúplingar
Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir
56
Allt fyrir bílinn St il l in g hf. | Sí mi 5 2 0 8 0 0 0 | w w w. s t i l l i n g . i s | s t i l l i n g @ s t i l l i n g . i s