Skip to main content

FÍB Blaðið 1.tbl. 2020

Page 45


OLÍUVERÐS LÆKKUN SKILAR

SÉR EKKI

HlEÐSla R afBÍla

tRygginga félaganna

Knarrarvogi

Háaleitisbraut

Skúlagötu Sprengisandi

Öskjuhlíð Skeifunni

Kópavogsbraut

Kaplakrika

Hafnarfjarðarhöfn

Kjalarnesi

Mosfellsbæ

Kirkjustétt Starengi

Bíldshöfða

BYKO Breidd

Búðakór

Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi)

Egilsstöðum Fagradalsbraut 15

Stykkishólmi Reykjanesbæ

Borgarnesi

Mosfellsbæ

Hveragerði

VELDU ÞÍNA STÖÐ!

Akureyri - Glerártorgi

Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO

Borgarnesi

Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn

Hafnarfirði - Kaplakrika*

Hveragerði

Kjalarnesi

Kópavogi - Búðakór

Kópavogi - Kópavogsbraut

Kópavogi - Byko Breiddinni

Mosfellsbæ

Reykjanesbæ - Stapabraut

Reykjanesbæ - Hólagata

Reykjavík - Bíldshöfða

Reykjavík - Háaleitisbraut

Reykjavík - Kirkjustétt

Reykjavík - Knarrarvogi

Reykjavík - Skeifunni

Reykjavík - Skúlagötu

Reykjavík - Sprengisandi*

Reykjavík - Starengi

Reykjavík - Öskjuhlíð

Selfossi

Stykkishólmi

Egilsstöðum

*afsláttarlaus stöð – okkar langlægsta verð.

ATLANTSOLÍA FÍB

FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 15 krónu afslátt á valinni Atlantsolíustöð.

Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.

MEIRA FYRIR HJÁ ATLANTSOLÍU FÍB FÉLAGA

ÚTGEFANDI:

FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA

Ritstjóri

Jón Kristján Sigurðsson

Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson

Höfundar efnis

Björn Kristjánsson

Jón Kristján Sigurðsson Runólfur Ólafsson

Ólafur Hauksson

Prófarkalestur

Snorri G. Bergsson

Ljósmyndir

Björn Kristjánsson

Jón Kristján Sigurðsson

Forsíðumynd

Björn Kristjánsson

Umbrot/Auglýsingar

Björn Kristjánsson bjorn@fib.is

Prentun

Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 18.000

FÍB blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 8.580.-

Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið.

FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA

Skúlagötu 19

101 Reykjavík

Sími: 414-9999

Netfang: fib@fib.is

Veffang: www.fib.is

Öll él hafa rof

Við lifum nú á óþekktum og varasömum tímum samhliða baráttunni gegn kórónaveirunni þar sem fólk þarf að bregðast við nýjum og ógnvekjandi aðstæðum. Í framvarðarsveitunum eru almannavarnir, starfsfólk heilbrigðisgeirans, stjórnvöld, bráðaliðar og lögreglan sem vinna ómetanlegt starf. Margir fleiri leggja ómetanleg lóð á vogarskálarnar, s.s. starfsmenn verslana, þjónustufyrirtækja og menntageirans.

Það ríkir kreppuástand og flest þekkjum við einhvern sem hefur fengið veiruna, er í einangrun eða sóttkví. Hvað hefur áhrif á okkur og hvað getum við gert? Fjölmiðlar eru með öfluga umfjöllun um ástandið og ábendingar um æskilegar ráðstafanir til þess að draga úr smithættu og mikilvægi þess að halda sér í líkamlegu og andlegu formi.

Einangrun og skortur á félagslegum samskiptum svo að vikum skiptir skapar mikla erfiðleika. Á þessum óvenjulegu tímum sannar sig gildi samvinnu og samkenndar. Við þurfum að hegða okkur skynsamlega, þrauka og standa saman um að rjúfa smitleiðir til þess að hrekja veiruna á braut fyrr en seinna.

Því er mikilvægt að gæta að öryggi og velferð á þessum erfiðu tímum. Starfsfólk og samstarfsaðilar FÍB standa vaktina fyrir félagsmenn allan sólarhringinn í þessum ólgusjó. Við erum ekki ein í þessari baráttu og eitt af hlutverkum FÍB er að vera til staðar, veita þjónustu og hlúa að samfélaginu á þessum krepputímum.

Engin nótt er svo dimm að eigi komi dagur á eftir. Með samstöðu og skynsemi birtir fljótlega til.

Ótrúlegt fálæti þingmanna

Mikill meirihluti Alþingis samþykkti í síðasta mánuði lög um að fella niður skilyrði um leyfisveitingar fyrir sölu notaðra ökutækja. Ákveðið var umræðulítið að fella niður ákvæði fyrri laga um löggildingarnámskeið og -próf fyrir bifreiðasala. Ekki þarf lengur að sækja um leyfi til yfirvalda til að reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki. Bílasölur eru ekki lengur skyldaðar til að vera með starfsábyrgðartryggingu sem eykur neytendavernd viðskiptavina. Tekið er út ákvæði um að bílasali skuli í hvívetna leysa störf sín af hendi í samræmi við góðar viðskiptavenjur og að viðskiptavinir bílasala njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör. Einnig er búið að fella út ákvæði um að aðilum séu ekki settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum.

Fálæti stórs hluta fulltrúa almennings á löggjafarþinginu sætir furðu. Með breyttum lögum er dregið stórkostlega úr neytendavernd í bílaviðskiptum, þvert á ábendingar og alvarleg varnaðarorð FÍB fyrir hönd neytenda. Einnig er þetta þvert á umsagnir Bílgreinasambandsins og Samtaka ferðaþjónustunnar, þeirra atvinnugreina sem hafa mesta fjárhags- og faglega hagsmuni af regluverki bifreiðaviðskipta.

Hvaða tilgangi þjónar svona pólitískt gerræði? Ekki neytendum og ekki bílgreininni.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri

Má bjóða þér 40% afslátt í hraðhleðslu?

ON-lyklahafar með heimili eða fyrirtæki

í viðskiptum fá afslátt í öllum hraðhleðslum

Kynntu þér allt um málið á www.on.is

FÍB BLAÐIÐ

Stýring umferðarljósa bætir umferð og öryggi

Það er alltaf að koma betur í ljós hve miðlæg stýring umferðarljósa gegnir stóru og mikilvægu hlutverki í umferðinni. Í Evrópu hefur um árabil verið unnið markvisst að því að flæði í umferðinni sé hvað best og hefur þessi stýring gefist vel og undirstrikað mikilvægi sitt. Stýringin hefur komið allt öðru og betra flæði á umferðina í heild sinni og ganga sumir svo langt að segja að hún bætir öryggið á margan hátt.

Hér á landi finnst mörgum þessum þætti ekki hafa verið fylgt eftir sem skildi enda er sum staðar ekki um neina stýringu að ræða. Þar sem stýringu er ábótavant hægir á flæði og getur hæglega skapað hættu. Á tæknitímum ætti ekki að vera erfitt að koma þessum málum í viðunandi ástand, öllum til hagræðis og bættu öryggi.

Öll umferðarljós tengd miðlægri stýritölvu fyrir 2022

Það er þó ráðamönnum til hróss í þessum efnum að á undanförnum árum hafa þeir smám saman verið að vakna til lífsins en betur má ef duga skal. Á síðustu misserum hefur verið unnið að samtengingu umferðarljósa á höfuðborgarsvæðinu og miðlægri stýringu þeirra en verkefnið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Fram hefur komið að umferðarljós eru á um 200 stöðum á höfuðborgarsvæðinu, það er á gatnamótum og gönguþverunum og er rúmlega helmingurinn tengdur við miðlæga stýritölvu umferðarljósa, MSU. Skilgreiningin á MSU er að um er að ræða kerfi sem tekur tillit til umferðar og velur þau plön sem ná bestum árangri fyrir viðkomandi svæði hverju sinni.

Gert er ráð fyrir í áætlunum að árið 2022 verði öll umferðarljós á höfuðborgarsvæðinu tengd MSU. Þegar aflað er upplýsinga um málið og hvernig uppbygging gengur kemur í ljós að sl. haust voru 112 gatnamót/gangbrautir á höfuðborgarsvæðinu tengdar við miðlæga stýritölvu umferðarljósa, MSU. Samkvæmt samgöngusáttmálanum verða 7,2 milljarðar króna settir í verkefnið.

Ferðast um fallega landið okkar

Mikill ógnvaldur, kórónaveiran sem veldur covid-19, hefur farið um heimsbyggðina eins og eldur í sinu á síðustu mánuðum með skelfilegum afleiðingum. Veiran hefur sett allt venjulegt líf fólks um allan heim úr skorðum. Lífið og gangur þess er með öðrum hætti en áður og það verður fyrir marga ekki eins og áður. Umferðinni hefur slegið niður um allan heim, götur víðast hvar tómar og varla sálu að sjá. Covid-19 faraldurinn hefur haft víðtæk áhrif á umferðina á höfuðborgarsvæðinu og vítt og breitt um landið. Menn hafa aldrei í annan eins tíma séð annan eins samdrátt í umferð. Það færi ekki svo samt að Íslendingar myndu aldrei sem fyrr keyra um sveitir landsins í sumar og njóta þess sem þetta fallega land býður upp á. Tíminn einn verður að leiða það í ljós.

Efnisyfirlit

8 Okur tryggingafélaganna

10 Bætt umferðaröryggi í Evrópu

12 Hleðsla rafbíla

14 Öryggisinnkallanir bíla

17 Vegtollar í Noregi og Spáni

20 Hringtorg draga úr hraða

21 Nýir bílar 2020

33 Bílnum gefið start

34 Reynsluakstur Nissan Juke

36 Reynsluakstur Peugeot 208e

40 Oft var líf í tuskunum

42 María Jóna Magnúsdóttir frk. BGS

44 Ferðalag um Florida

47 FÍB Aðstoð á Hellu

48 FÍB Afslættir

Jón Kristján Sigurðsson

Skýrasta myndin af okri

Stóra myndin á þessari síðu segir meira en þúsund orð um gegndarlaust okur tryggingafélaganna á bíleigendum. Þar sést hvernig vísitala bílatrygginga hefur flogið fram úr vísitölu neysluverðs.

Framúrakstur iðgjalda ábyrgðartrygginga ökutækja hófst fyrir alvöru 2014. Á hverju ári eftir það hækkuðu bílatryggingarnar langt umfram vísitölu neysluverðs. Hlutfallslega hækkuðu bílatryggingar um 84% frá 2008 til 2019 meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 42%. Með öðrum orðum, á þessum 10 árum hækkuðu bílatryggingar helmingi meira en neysluvörur almennings.

Ótrúverðugar skýringar tryggingafélaga

Tryggingafélögin hafa í gegnum tíðina komið með fjölbreyttar skýringar til að réttlæta hækkanirnar. Spennan í þjóðfélaginu hafi gert ökumenn óvarkárari, fjölgun bíla og fjölgun ferðamanna var viðtekin viðbára.

Við bættist svo talnaleikfimin um að „samsett hlutfall“ tjónakostnaðar væri ekki nógu hagstætt. FÍB hefur margoft bent á að „samsetta hlutfallið“ byggist á áætlunum

Hlutfallsleg hækkun bílatrygginga*

miðað við hækkun vísitölu neysluverðs

*Ábyrgðartryggingar ökutækja (skyldutryggingar)

Vísitala ábyrgðartrygginga Vísitala neysluverðs Heimild: Hagstofan

tryggingafélaganna um tjónaog rekstrarkostnað – ekki raunverulegum tjónakostnaði. Félögin hafa leyft sér í gegnum tíðina að hagræða þessum tölum eftir hentugleikum til þess ýmist að sýna góðan hagnað eða til að dæla peningum inn í skattfrjálsu bótasjóðina.

Slysafjöldi og fjöldi ökutækja

Slysatölurnar segja aðra sögu

Umferðarslysum án meiðsla fækkaði frá 2009 til 2012 en fjölgaði síðan í takt við fjölgun ökutækja. Iðgjöld hefðu því átt að lækka til að byrja með og síðan í mesta lagi fylgja vísitölu neysluverðs. Fjöldi slasaðra, þar á meðal alvarlegra slasaða, hefur verið lítið breyttur allan þennan tíma. Mesti kostnaður tryggingafélaganna er einmitt vegna líkamstjóna.

Umferðarslysafjöldi er nánast sá sami 2009 og 2019, í kringum 6.600 óhöpp og yfir 80% án meiðsla. Á þessum áratug fjölgaði ökutækjum um 32%, úr 205 þúsund í 270 þúsund. Þetta þýðir að umferðarslysum á hvern bíl hefur fækkað um 22%. Slysin voru 0,025 per bíl árið 2019 en 0,032 árið 2009. Samt hækka iðgjöld trygginganna.

Fjöldi slysa Fjöldi slasaðra Fjöldi ökutækja

okri tryggingafélaganna

Árið 2019 stendur útúr

Vinsælasta réttlæting tryggingafélaganna fyrir hækkun iðgjalda síðustu árin hefur verið að mikill hagvöxtur hafi skapað spennu og óþreyju sem hafi leitt til fjölgunar umferðaróhappa. Þetta er ekki rétt, umferðaróhöppum hefur fjölgað í réttu hlutfalli við fjölgun ökutækja.

Ef eitthvað væri til í þessari skýringu tryggingafélaganna, hvers vegna hafa þau þá ekki lækkað iðgjöldin í ljósi minnkandi spennu í þjóðfélaginu á síðasta ári og fækkunar umferðarslysa um 8%? Hvers vegna hækkuðu iðgjöldin um 6% árið 2019 frá árinu áður?

Svo vel högnuðust tryggingafélögin á oftöku iðgjalda 2019 að þau gátu ekki leynt kátínu sinni. Í fréttum mátti lesa um „heilbrigðan og kröftugan iðgjaldavöxt“ og stórbætta afkomu.

Bara ein leið til að berjast á móti okrinu

Bíleigendur hafa í raun aðeins eina leið til að takast á við tryggingafélögin. Það er að óska eftir tilboðum í tryggingar sínar frá þeim öllum á hverju ári og taka alltaf lægsta tilboðinu. Mýmörg dæmi eru um að fastir viðskiptavinir borga alltaf hæstu iðgjöldin. Félögin leggja sig ekki fram um að verðlauna þá fyrir tryggðina með lækkun

iðgjalda. Þess vegna þurfa þeir að gerast „nýir“ viðskiptavinir á hverju ári og skapa þannig einskonar samkeppnisumhverfi.

Ekki þýðir að treysta á neytendahlutverk Fjármálaeftirlitsins.

Eins og fram hefur komið þá er FME vita gagnslaust í þessu hlutverki og áhugi þess beinist eingöngu að því að tryggingafélögin hagnist sem mest.

Græn bílafjármögnun

Við fellum niður lántökugjöld á lánum vegna kaupa á umhverfisvænni bílum.

Kynntu þér græna bílafjármögnun Arion banka.

arionbanki.is

Stórt skref í átt að bættu umferðaröryggi í Evrópu

Á heimsþinginu um umferðaröryggi sem haldið var í Stokkhólmi í febrúar var lögð gífurleg áhersla á að bæta umferðaröryggi og um leið alla innviði þeirra á heimsvísu á næstu árum. Ljóst er að mun meira fjármagni verður veitt nú en áður í þá þætti sem snúa almennt að umferðaröryggi. Markmið ráðstefnunnar var að miðla þekkingu og ræða leiðir til að auka umferðaröryggi á heimsvísu, meðal annars á grunni heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Á þinginu var fjallað um reynslu og innleiðingu Svía og nokkurra annarra ríkja á stefnu um núllsýn (e. Vision Zero) í umferðaröryggi. Núllsýn felst í að stefna skuli að því að engin banaslys eða alvarleg slys verði í umferðinni í náinni framtíð. Mikilvægt væri að viðurkenna ekki að banaslys í umferðinni geti verið viðunandi ástand og miða opinberar áætlanir, aðgerðir, fræðslu og eftirlit við núllsýn. Frá því að stefnan var innleidd í Svíþjóð árið 1997 hefur tekist að draga úr umferðarslysum um helming.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sótti heimsþingið í Stokkhólmi um umferðaröryggi en það sóttu 80 samgönguráðherrar víðs vegar að úr heiminum en auk þeirra stjórnendur og fulltrúar alþjóðastofnana og félagasamtaka og aðilar frá atvinnulífinu, þ.á m. bifreiðaframleiðendum og fjárfestingarfyrirtækjum. Alls tóku um 1.700 manns þátt í ráðstefnunni frá 140 löndum.

Fjögur ungmenni sóttu ráðstefnuna

Fjögur íslensk ungmenni sátu ráðstefnuna en yfirskrift hennar útleggst á íslensku „Hingað og ekki lengra“. Yfirskriftin vísar til þeirrar kröfu ungmenna um allan heim að

stjórnvöld og samfélag taki höndum saman um að fækka alvarlegum slysum og dauðaslysum í umferðinni. Á ráðstefnunni hafa um 200 ungmenni frá 75 löndum hvaðanæva úr heiminum sagt frá reynslu sinni og baráttumálum. Staðan væri mjög ólík eftir heimshlutum en á heimsvísu látast 500 börn á dag í umferðarslysum. Þátttakendur voru sammála um mikilvægi þess að ungmenni væru þátttakendur í stefnumótun og ákvarðanatöku í umferðaröryggismálum og að ungt fólk yrði að vera þar í forystu.

Á þinginu var kunngert að Evrópski fjárfestingabankinn, EIP, væri genginn til samstarfs við þrjú félaga-samtök sem leiða vegamatsáætlanir (RAP) sem hluta af alþjóðlegu átaki til að fækka verulega dauðsföllum og alvarlegum slysum á heimsvísu fyrir árið 2030. EIB og Evrópska vegamatsáætlunin (EuroRAP), alþjóðlega vegamatsáætlunin (iRAP) og umferðaröryggisstofnunin (RSF) ætla að taka höndum saman og styðja sérstaklega fjárfestingar í uppbyggingu á bættum og öruggari vegum.

Allir munu leggjast á eitt að ná settum markmiðum

Ferry Smith, stjórnarformaður EuroRap, sagði eftir undirritunina að samstarfið væri gríðarlega ánægjulegt og stórt skref í þá átt að bæta umferðaröryggi í Evrópu og um allan heim. Í þessu felst mikil áskorun og allir munu leggjast á eitt við að ná settum markmiðum.

Lilyana Pavlova, varaforseti EIB–hópsins, sagði þetta stóran dag með það að markmiði að bæta umferðaröryggi um allan heim. Mikilvægt er að geta sótt nauðsynlega ráðgjöf, þjálfun og færni til að þróa öruggari vegi og efla innviði.

Á þinginu var sænskum stjórnvöldum veitt hin eftirsóttu alþjóðlegu iRAP nýsköpunarverðlaun. Alþjóðlegu vegaöryggissamtökin iRAP eru móðursamtök EuroRAP sem hefur allt frá árinu 2005 tekið út öryggi íslenskra vega.

Verðlaunin eru veitt vegna frumkvæðis við hönnun og þróun 2+1 vega með víravegriði til aðgreiningar á akstursstefnum. Uppbygging 2+1 vega hefur dregið verulega úr alvarlegum framanákeyrslum og skilað helmingsfækkun í fjölda látinna og alvarlega slasaðra í Svíþjóð og mörgum öðrum löndum sem notast við þessa hönnun vega.

Umferðaröryggi er mikilvægasta verkefni okkar í samgöngum Í viðtali við Sigurður Ingi segir hann að Ísland sé sannanlega ofarlega á heimsvísu í umferðaröryggi. „Umferðaröryggi er mikilvægasta verkefni okkar í samgöngum og við þurfum samstillt átak hér á landi til að tileinka okkur hugarfar um núllsýn í umferðaröryggi og útrýma banaslysum og alvarlegum slysum alfarið. Með samstilltu átaki og fræðslu hefur tekist að fækka slysum á sjó síðustu ár og áratugi svo að um munar, en síðustu þrjú ár hefur ekkert banaslys orðið,“ segir hann.

Skipti sköpum fyrir umferðaröryggi að aðskilja akstursstefnur

Ráðherra segir að sköpum skipti fyrir umferðaröryggi að aðskilja akstursstefnur á umferðarþyngstu þjóðvegum og stofnbrautum.

„Það verða mikilvægustu öryggisaðgerðir sem við ráðumst í hér á landi í seinni tíð,“ segir ráðherra. „Einnig er mikilvægt að tryggja góða fræðslu og forvarnir vegna aukinnar snjallsímanotkunar í umferðinni. Ný umferðarlög sem tóku gildi um síðustu áramót taka

harðar á notkun snjallsíma og heimildir til sekta voru hækkaðar,“ segir Sigurður Ingi.

Samhliða heimsþinginu átti

Sigurður Ingi Jóhannsson tvíhliða fundi með Knut Arild Hareide, samgönguráðherra Noregs, annars vegar og með Benny Engelbrecht, samgönguráðherra Danmerkur, hins vegar.

Fjölmörg mál voru á meðal umræðuefna á fundum Sigurðar Inga með kollegum sínum, en þeirra á meðal var reynsla Norðmanna og Dana af samvinnuverkefnum í samgönguframkvæmdum og nýleg löggjöf í Noregi á sviði leigubifreiða.

Norrænir ráðherrar ræða aukið samstarf

Ráðherrarnir ræddu einnig undirbúning á ráðherrafundi og málþingi norrænna samgöngu- og orkumálaráðherra um sjálfbærar samgöngur sem haldinn verður í Kaupmannahöfn í byrjun maí. Þar ætla ráðherrar frá öllum Norðurlöndunum að ræða aukið samstarf og leiðir til efla sjálfbærar samgöngur, orkuskipti í samgöngum, fjölbreytta samgöngumáta og möguleika upplýsingagátt um almenningssamgöngukerfi. Þjóðirnar hafa ýmist ýtt úr vör slíkri gátt eða eru að undirbúa slíkt, eins og raunin er hér á landi í takt við nýja heildarstefnu um almenningssamgöngur milli byggða.

Mjög góð þátttaka var á ráðstefnunni og var hún sótt af 80 samgönguráðherrum ýmissa landa.

Flestir gera sér nú ljóst að rafbílar eru framtíðin varðandi orkuskipti í samgöngum og að nýir bensín- og dísilbílar munu ekki verða seldir í framtíðinni. Margar þjóðir og einstaka borgir hafa gefið það út að bílar með mengandi útblástur verði bannaðir á komandi áratug. Fólk sem er að hugsa um að kaupa nýjan bíl ætti ekki að kaupa bensín- eða dísilbíla, þar sem þeir verða brátt úreltir.

Mikilvægt er að halda fast í tauma svo aðþróunin í fjölgun rafbíla haldi áfram á Íslandi og markmið okkar um orkuskipti í samgöngum nái fram að ganga. Ísland á nokkuð langt í land að ná settum markmiðum og því þarf að halda stuðningi við orkuskipti áfram.

Breytingar á byggingarreglugerð 2018 og á fjöleignarhúsalögum eru mikilvæg skref í þessu ferli. Nýjum leiðbeiningum um hleðslu rafbíla er ætlað að styðja við þessa þróun.

Kröfur í byggingarreglugerð

Í byggingarreglugerð frá 20. júní 2018 eru kröfur um hleðslumöguleika fyrir rafbíla fyrir allar nýjar byggingar og vegna endurbygginga. Kröfurnar eru mismunandi fyrir íbúðarhúsnæði annars vegar og byggingar til annarra nota hins vegar.

Byggingarreglugerð gerir nú kröfu um að í nýbyggingum og við endurbyggingu skuli gert ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hvert bílastæði.

Kröfurnar gilda fyrir allar nýjar byggingar sem samþykktar hafa verið af byggingarnefnd viðkomandi sveitarfélags frá þeim tíma. Athuga ber að kröfurnar gilda óháð því hvort þær koma fram á aðaluppdráttum eða hvort láðst hefur að geta þeirra. Allir aðilar tengdir byggingarframkvæmdum þurfa því að vera vakandi í byggingarferlinu,

Nýjar leiðbeiningar

Hleðsla rafbíla

þannig að ekki þurfi að ráðast í kostnaðarsamar aðgerðir eftir á.

Nýjar leiðbeiningar fyrir fjölbýlishús

Árið 2019 setti Mannvirkjastofnun (nú Húsnæðis- og mannvirkjastofnun) af stað verkefni um gerð leiðbeininga fyrir rafbílahleðslu í fjölbýlishúsum. Mikil þörf er fyrir heildstæðar leiðbeiningar varðandi fyrirkomulag hleðslu í nýjum og eldri byggingum. Þær eru ætlaðar bæði leikmönnum og fagaðilum varðandi kröfur og bestu leiðir til uppsetningar á hleðslustöðvum.

Leiðbeiningarnar verða með nánari útlistun á kröfum byggingarreglugerðar til nýbygginga. Þar kemur fram hverju þarf að huga að í nýjum byggingum varðandi hönnun og frágang til að uppfylla byggingarreglugerð. Mikilvægt er að auðvelt verði að setja upp hleðslu í fjölbýlishúsum á hagkvæman hátt. Til þess að það megi verða þarf að ganga nokkuð langt í frágangi, þannig að hver og einn íbúi þurfi ekki að leggjast í kostnaðarsamar aðgerðir eftir á. Til dæmis þarf nægjanlega mikið afl rafmagns inn í bygginguna til að anna núverandi notkun og þeirri notkun sem fyrirsjáanleg er í framtíðinni.

Fyrir fjölbýlishús er aflstýring milli hleðslustöðva vitrænasti kosturinn til að nýta afl byggingarinnar sem best og rétt að gera ráð fyrir því frá byrjun í hönnun nýbygginga. Ekki er þörf á að allir rafbílar geti hlaðið með hámarksafköstum á sama tíma.

Eldri fjölbýlishús

Fyrir eldri fjölbýlishús skiptir aflstýring sérstaklega miklu máli, þar sem nýta verður sem best aflið sem er til aflögu. Þó nokkur kostnaður getur verið fólginn í því að stækka rafmagnsinntak bygginga. Fyrir flesta rafbíla og fullkomnari hleðslustöðvar er hægt að stilla hvenær dagsins

hleðsla fer fram en æskilegt er að hlaða á nóttunni þegar almenn rafmagnsnotkun er einna minnst. Í flestum tilvikum er hægt að koma upp ásættanlegri rafbílahleðslu í eldri byggingum með aflstýringu. Í framtíðinni, þegar flestir verða komnir á rafbíla, gæti aflþörfin verið meiri en kerfið ræður við. Sú lausn, sem valin er til rafbílahleðslu, þarf því að taka mið af þessum breytingum.

Myndirnar sýna hvernig rafmagnsálag (notkun) er í fjölbýlishúsum á mismunandi tímum og hvernig best er að nýta þá orku sem er til staðar.

Dæmigerð álagskúrfa notkunar fjölbýlishúss. Mest álag er á milli 16 og 22.

Álagskúrfa almennrar notkunar (grá) að viðbættu álagi við hleðslu rafbíls (græn)

Mögulegt afl sem er til staðar í kerfi fjölbýlishúss, miðað við að hleðslu sé dreift á allan sólarhringinn

Kórónafaraldurinn hefur í för með sér mikinn efnahagslegan samdrátt sem ekki sér fyrir endann á. Ekkert bólar á samkomulagi um framleiðslukvóta á olíu á milli Saudi Araba og Rússa og bæði löndin hafa aukið framboð sitt á olíumörkuðum samhliða miklum samdrætti í eftirspurn. Mikið framboð í lítilli eftirspurn mun halda olíuverði niðri á næstunni.

Eldsneytisverð til íslenskra neytenda hefur lækkað töluvert undanfarið en mun minna en á flestum öðrum mörkuðum. Fram kom í frétt á FÍB vefnum þann 25. mars sl. að frá miðjum janúar í ár til 25. mars hefði bensínlítrinn hjá N1 lækkað um 20,90 krónur og kostaði 221,90 krónur. Dísillítrinn hafði lækkað á sama tíma um 18,50 krónur niður í 217,40 krónur. Í Danmörku hafði bensínlítrinn á sama tíma lækkað að meðaltali um 45 krónur og dísillítrinn um ríflega 35 krónur. Í Svíþjóð var lækkunin að meðaltali 43 krónur fyrir bensínið og 29 krónur fyrir dísilolíuna. Veiking íslensku krónunnar skýrir hluta af þessum

Síðustu tvo daga marsmánaðar lækkuðu íslensku olíufélögin verðin hjá sé um allt að 5 krónur á lítra. miðað við þróun heimsmarkaðarins. Brent hráolíuverðið hefur fallið um allt að 60% á síðustu vikum, farið niður undir 22 Bandaríkjadali og hefur ekki verið lægra frá árinu 2002. Þrátt fyrir drjúgar verðlækkanir á í mars hér heima þá hafa olíufélögin ekki verið að skila eðlilegri verðlækkun til neytenda. Meðalálagning á hvern bensínlítra á íslenskum markaði er yfir 13 krónum hærri í mars samanborið við febrúar í ár.

Líklega reyna olíufélögin að réttlæta aukna álagningu með með tilvísun í mikinn sölusamdrátt sem fylgir kreppunni. Costco hefur svarað lækkuðu heimsmarkaðsverði einna best og líklega mun það auka við markaðshlutdeild þeirra. Lækkun

almennra neytenda og fyrirtækja til skamms og lengri tíma. Lægra eldsneytisverð hefur einnig jákvæð áhrif á neysluvísitöluna og þar með verðólguþróun. Allt eru þetta ríkir hagsmunir neytenda og þjóðfélagsins í heild sem hjálpa til við að draga úr hægagangi efnahagslífsins á ólgutímum. Þessi verðstefna á íslenskum fákeppnismarkaði skaðar neytendur og atvinnulífið og skapar vantraust hjá almenningi gagnvart fyrirtækjum í olíuviðskiptum.

Costco hefur svarað lækkuðu heimsmarkaðsverði einna best og líklega mun það auka við markaðshlutdeild þeirra. Mynd tekin 19.03.20

Skráningar- og skoðunarskylda eftirvagna

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um að taka út ákvæði í nýjum umferðarlögum um skráningar- og skoðunarskyldu léttra eftirvagna. Þetta virðist gert að undirlagi Samgöngustofu.

FÍB telur það veigamikið öryggisatriði að skrá og hafa eftirlit með ástandi léttra eftirvagna. Leggja þarf mat á hönnun, smíði og samsetningu vagnanna og fara yfir raunverulegt burðarþol. Skráning og skoðun tryggir eftirlit með öryggisbúnaði, ljósabúnaði, burðarvirki og tengibúnaði m.m. Þetta aukna aðhald og eftirlit stuðlar að auknu umferðaröryggi.

Í flestum nágrannaríkjum okkar eru léttir eftirvagnar skráðir og skoðunarskyldir. Þar eru vegir oftast skárri en hér á landi og hámarkshraði eftirvagna lægri.

Með skráningar- og skoðunarskyldu léttra eftirvagna í umferðarlögum (77/2019) var loks orðið við hvatningu Rannsóknarnefndar umferðarslysa um aukið öryggi í þessum ökutækjaflokki. Innan tveggja mánaða frá gildistöku laganna er ráðuneyti umferðaröryggismála búið að leggja fram drög að frumvarpi til laga um breytingu á umferðarlögum sem viðheldur ástandi sem ógnar umferðaröryggi.

Þrátt fyrir lagabreytinguna 1. janúar 2020 hefur Samgöngustofa ekki hafa breytt verklagi sínu varðandi skráningu eða skoðun eftirvagna sem eru undir 750 kg að þyngd. Það sætir furðu að stofnun sem fer með stjórnsýslu samgöngumála viðhafi verklag sem samræmist ekki umfeðralögum.

Frekari rök fyrir skráningu og eftirliti með léttum kerrum:

• Léttir eftirvagnar eru oft heimasmíðaðir sem skapar óvissu um gæði smíðinnar og burðargetu.

• Eftirvagnar standa gjarnan óhreyfðir svo mánuðum skiptir. Við þær aðstæður er hætta á að hjólabúnaður og tengibúnaður, veðrist, tærist og skemmist. Af þeim sökum hafa hjól farið undan eftirvögnum í almennri umferð.

• Reynslan sýnir að töluverður fjöldi eftirvagna í umferð er án ljósabúnaðar þótt hann sé áskilinn.

• Mörg dæmi eru um eftirvagna sem ekki eru búnir öryggiskeðju til að festa í ökutækið sem dregur en það er nauðsynlegt öryggisatriði sérstaklega þegar um er að ræða óhemlaðan eftirvagn.

• Samkvæmt 3. grein reglna um tengingu og drátt ökutækja nr. 394/1992 þá ber að setja skráningarnúmer dragandi ökutækis á óskráðan eftirvagn ef vagninn skyggir á númer bílsins. Þetta er væntanlega til þess að hægt sé að greina ökutækið í umferð. Á þessu er fullkominn misbrestur í dag enda flækjustigið hátt. Þetta kallar á að til reiðu sé aukanúmeraplata með númeri bílsins sem dregur. Aukanúmer þarf að panta og borga sérstaklega fyrir. Skráningarskylda eftirvagna leysir þetta vandamál.

Starfsmaður FÍB tók þessa mynd á dögunum af kerru sem virtist vera í reglulegri notkun þar sem nýlegur ljósabúnaður var á henni. En þegar betur var að gáð þá kom í ljós að hásing er byrjuð að missa styrk og bogna, fjaðrablað er brotið hægra megin og hægri dempari sömuleiðis horfinn. Þá voru ekki samstæð dekk undir kerrunni. Þessi kerra er ekki skráningar né skoðunarskyld og því engin leið fyrir yfirvöld að koma í veg fyrir að eigandi keyri með hana á allt að 80 km/h. með tilheyrandi hættu fyrir ökumann og aðra vegfarendur.

Stafræn ökuskírteini með vorinu

Í vor verður hægt að fá ökuskírteini í síma. Fjölmargir nota nú símann sem greiðslukort, flugmiða og fleira. Stafræn ökuskírteini verða til hagsbóta fyrir fólk enda er síminn oftast með í för og líkur á að þessu fylgi töluverð þægindi fyrir einstaklinga.

Stafrænt Ísland hefur á síðustu mánuðum unnið að útgáfu stafrænna ökuskírteina í samvinnu við Ríkislögreglustjóra til notkunar í snjallsíma innan Íslands. Mikil þróun hefur verið á undanförnum árum í notkun á öruggri snjallsímaþjónustu sem gerir það kleift að gefa ökuskírteini út með öðrum hætti en á plastkortum.

Ökuskírteinagrunnur og afgreiðslukerfi ökuskírteina er komið til ára sinna og kallaði á stafræna lausn til þæginda fyrir almenning. Nú er tæknileg útfærsla tilbúin og ekkert því til fyrirstöðu að hefja útgáfu á stafrænum ökuskírteinum fyrir snjallsíma, jafnt fyrir Android- og iOS-stýrikerfi.

Notendur munu geta fengið stafrænu ökuskírteinin með því að sækja um þau á Ísland.is, sem tryggir örugga afhendingu þeirra með rafrænum skilríkjum. Stefnt er að því að koma stafrænum ökuskírteinum í gagnið fyrir 1. júní 2020.

Volkswagen greiðir þýskum

neytendum 130 milljarða í bætur

Samningar eru loksins í höfn á milli þýska bílaframleiðandans Volkswagen, þýsku neytendasamtakanna og ADAC, systursamtaka FÍB, í Þýskalandi í hinu svokallaða dísilsvindli sem upp komst á sínum tíma. Forsvarsmenn Volkswagen hafa boðist að greiða þýskum bíleigendum sem urðu fyrir barðinu á stóra útblásturshneykslinu, um 830 milljónir evra eða 130 milljarða íslenskra króna.

Um það bil 450 þúsund eigendur Volkswagen dísilbíla höfðuðu mál á hendur bílasmiðjunum. Bæturnar eru á bilinu 250 þúsund upp í eina milljón króna á hvern bíl. Þar ræður tegund og árgerð bílsins. Áður hafði náðst sátt við eigendur bíla frá fyrirtækinu í Kanada, Bandaríkjunum og Ástralíu.

Samingaviðræður á milli aðila hafa staðið yfir um langa hríð og á ýmsu hefur gengið. Um áramótin settust aðilar niður til að leita ráða sem gæti að lokum leitt til niðurstöðu. Ef það hefði ekki tekist hefði málinu verið skotið til héraðsdómstólsins í Braunschweig. Volkswagen var í mun að ljúka þessu máli og ná sáttum við neytendur eins og nú hefur orðið raunin.

Eins og frægt varð á sínum tíma beið Volkswagen álitshnekki í september 2015 eftir að upp komst að þessi annar tveggja stærstu bílaframleiðenda heims hafði komið fyrir hugbúnaði í tölvukerfi nokkurra vinsælustu dísilknúnu bílgerða sinna –búnaði sem fegraði stórlega niðurstöður mengunarmælinga bílanna.

Komið var fyrir hugbúnaði eða forriti í í tölvum bíla sem skynjar þegar byrjað er að mengunarmæla þá. Búnaðurinn gangsetur þá hreinsibúnað í útblásturskerfi bílsins sem annars er lítt eða ekki virkur í venjulegri daglegri notkun hans.

Þetta þýddi að mengunarmælingin sýndi mjög fegraða mynd af losun NOx–sambanda og sótagna sem eru krabbameinsvaldar. Þær mengunartölur sem svona fengust og voru skráðar í gerðarviðurkenningarskjöl bílanna og eru því hrein og bein fölsun.

Vegtollar í Noregi og á Spáni

Löng hefð er fyrir því að bíleigendur í Noregi leggi fjármagn til vegagerðar með sérstökum veggjöldum. Það er kannski í það grófasta að segja að flestir Norðmenn hafi tekið þessum gjöldum, svokölluðum „bompenger“, með brosi á vör en þeir hafa lítið agnúast út af þessum vegatolli þar til nú. Ríkisstjórnin hefur nefnilega haft í hyggju að auka þá verulega til að standa undir kostnaði við ný umferðarmannvirki víða um Noreg. Þetta finnst þeim, sem kusu Framfaraflokkinn og komu honum í ríkisstjórn einmitt til að afnema vegatollana, ekki góð hugmynd. Vegna þessa hafa deilur um vegatollana sennilega aldrei verið meiri en nú síðustu árin. Stofnaður var sérstakur stjórnmálaflokkur, Bompengepartiet, árið 2015 sem hefur aðeins eitt mál á sinni stefnuskrá. Að afnema vegatolla.

Vegatollar eru enn og verða áfram notaðir til að fjármagna hraðbrautir, jarðgöng og nýjar samgönguæðar í borgum og bæjum konungsríkisins.

Oftast eru þeir lagðir af þegar búið er að greiða umferðarmannvirkin niður en þó ekki alltaf.

Höfuðborgin, Osló, heldur enn í alla tolla sína og notar þá m.a. til að takmarka notkun einkabíla þegar fólk fer til vinnu á morgnana, frá kl 06:30–09:00 og síðan heim á kvöldin frá 15:00–17:00. Fyrir utan borgarfólk, sem sækir vinnu í miðborginni á eigin bíl, er vegtollurinn fyrir venjulega fólksbifreið, bensínbíl, 77 norskar krónur (nkr) á háannatímanum. Þeir sem aka dísilbílum þurfa að borga 85 nkr. Utan háannatíma eru þessi gjöld hinsvegar 59 krónur fyrir bensínbíl og 69 krónur fyrir dísilbíl.

Hvergi í Evrópu eru fleiri rafbílar en í Noregi. Lengi vel gátu þeir ekið ókeypis í gegnum tollstöðvar en það breyttist þó 31. maí á þessu ári. Ástæðan var sú að tekjur hins opinbera af vegatollum höfðu dregist mikið saman vegna rafvæðingarinnar að þær nægðu varla fyrir viðhaldi á þjóðvegum hvað þá nýframkvæmdum. Þess vegna velti ríkisstjórnin fyrir sér að hækka enn álögur á bíleigendur auk þess að leggja lágmarkstoll á rafbíla sem nemur um 5 norskum krónum.

Megintilgangur veggjaldafjármögnunar er og verður að ná hraðari og markvissari uppbyggingu vegamannvirkja. Auk þess geta stjórnvöld notað hluta af vegtollinum til að styrkja almenningssamgöngur í þéttbýli. Þar er að sjálfsögðu átt við strætisvagna, sporvagna, neðanjarðarlestir og járnbrautirnar. Öll eru þess almenningssamgöngutæki vel nýtt af launþegum á leið til og frá vinnu og hópum eins og skólafólki.

Spánverjar eru með ágætis kerfi á innheimtu vegatolla á hraðbrautum sínum. Þar borga menn algerlega eftir notkun, þ.e. nokkurs konar kílómetragjald. Þannig að sá sem ekur 300 km eftir hraðbraut borgar þrisvar sinnum meira en sá sem ekur 100 km.

Þá má geta þess að nú eru Spánverjar búnir að ákveða að leggja niður vegatollana á AP 7 hraðbrautinni frá og með næstu áramótum. Hún mun að mestu vera niðurgreidd auk þess sem kostnaðurinn við vegatollstöðvarnar er orðinn svo mikill að talið er að stöðvarnar standi vart undir sér.

Öryggisinnkallanir bíla á Íslandi

Félag íslenskra bifeiðaeiganda (FÍB) boðaði nýverið til upplýsingarfundar um öryggisinnkallanir ökutækja á Íslandi. Fundinn sátu, auk fulltrúa FÍB, aðilar frá Bílagreinasambandinu, Samgöngustofu, Neytendastofu og BL. Markmið fundarins var að leita lausna við framkvæmd og eftirfylgni innkallana frá bílaframleiðendum að því er snýr að öryggi bílsins.

Farið var yfir samantekt um innkallanir og skiptingu þeirra þ.e. innköllun og öryggisinnköllun og enn fremur þá ferla sem eiga sér stað hálfu framleiðenda og síðan og umboðsaðila. Þá var velt að eftirfylgni og hvað megi betur fara í þeim málum þegar eigendur sinna ekki tilkynningu um innköllun.

Farið var yfir þau vandamál sem hafa skapast vegna bíla sem eru fluttir inn fram hjá umboði og ekki gagnagrunn framleiðenda eða umboðs og því erfitt að ná til.

Að lokum væru ræddar hugmyndir að lausnum:

Vefsíða þar sem neytendur geta flett upp bílnúmeri og fengið að vita um opnar innkallanir. Tengja þarf öryggisinnkallanir við ökutækjaskrá þannig að opin innköllun kalli á athugasemd eða synjun aðalskoðunar ökutækis þar sem það er telst ekki

Fundarmenn voru á einu máli um mikilvægi verkefnisins og samvinnu um farsælar lausnir. Ákveðið var að hittast mjög fljótlega á öðrum fundi

Peugeot 208 bíll ársins í Evrópu

Peugeot 208 var valinn bíll ársins í Evrópu 2020. 58 evrópskir blaðamenn tóku þátt í kjörinu og fyrir fram var búist við að Peugeot 208 myndi etja harða keppni við Tesla Model 3 og Porsche Taycan um útnefninguna. Það fór á annan veg því að sigur Peugeot var mun stærri og öruggari en búist hafði verið við.

Peugeot 208 hlaut alls 281 stig, Tesla Model 3 fékk 242 stig í öðru sætinu og í þriðja sæti hafnaði Porsche Taycan með 222 stig. 30 bílar voru í byrjun tilnefndir en dómararnir, sem komu frá 23 löndum, fækkuðu þeim í sjö sem teknir voru til kostanna í úrslituum. Í næstu sætum komu Renault Clio, Ford Puma, Toyota Corolla og loks BMW 1.

Peugeot 208 hefur lengi notið vinsælda í Evrópu en fæst í dag einnig sem rafbíll.

Framleiðendur bílsins binda miklar vonir við að rafbíllinn eigi eftir að seljast vel á næstu misserum. Forsvarsmenn Peugeot voru að vonum í sjöunda himni með niðurstöðuna og sögðu hana vekja athygli og ýta undir betri sölu á bílnum.

Undir venjulegum kringum er valið á bíl ársins í Evrópu kunnugert í tengslum við bílasýninguna í Genf en eins og fram hefur komið verður ekkert af henni vegna kórónaveirunnar.

Aftar í blaðinu er farið ítarlega yfir bíl ársins í reynsluakstri.

Jean Philippe Imparato varaformaður Peugeot veitti verðlaununum viðtöku.

Frumkvæði Euro NCAP skilar sér í auknu öryggi

Evrópska öryggisstofnunin Euro NCAP, sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu, tilkynnti að árið 2019 hefði verið það umfangsmesta frá stofnun samtakanna. 55 bílar frá 26 bílaframleiðendum gengust undir prófanir hvað öryggi þeirra snertir.

Euro NCAP og evrópski bílamarkaðurinn eru í fararbroddi hvað alla öryggisþætti varðar. Evrópskir bílaframleiðendur setja öryggið ofar öllu og eru komnir framar í þeim efnum en bílaframleiðendur annars staðar í heiminum. Þess má geta að árið 2022 tekur í gildi endurskoðuð öryggisre -

Þetta þýðir að 92% seldra bíla voru með vottun frá samtökunum. Einungis 3% seldra bíla voru ekki með þessa vottun. 75% bíla sem voru prófaðir fengu fimm stjörnur en til að fá þær þurftu þeir að vera búnir nýjustu árekstrarvörn sem viðurkennd er af Euro NCAP. AEB–bremsur, sem er sjálfvirk neyðarhemlun þegar bíllinn skynjar yfirvofandi hættu á árekstri, voru til staðar í 90% bílanna. 85% bílanna voru með ákveðna bremsuvörn til koma í veg fyrir að keyrt yrði á gangandi vegfaranda.

Euro NCAP fór fram á það árið 2018 að bílar þyrftu að búa yfir skynjara sem greindi hjólreiðareiðamenn. Því þótti ánægjuleg niðurstaða að 80% bílanna voru komnir með þennan skynjara 2019. Bílar eru almennt í dag öruggari en nokkru sinni. Það fer fyrst og fremst að þakka frumkvæði Euro NCAP og er góður vilji hjá bílaframleiðendum að gangast undir þær kröfur sem gerðar eru til þeirra.

Á 20 ára afmæli Euro NCAP var framkvæmt árekstrarprófanir

á 1997 árgerðinni af Rover 100 og síðan 2017 Honda Jazz. Var þetta gert til að sýna fram á þær framfarir sem hafa átt sér stað varðandi öryggi bifreiða.

glugerð Evrópusambandsins þar sem bætt verður við fleiri ákveðnum þáttum sem lúta að öryggi bílsins.

Niðurstöður 2019 sýna svo að ekki verður um villst að þessir öryggisþættir, sem eru nú þegar til staðar í bílum og er ekki síst til komnir vegna krafna frá Euro NCAP. Samtökin munu eftir sem áður hvetja bílaframeiðendur til dáða og þeir bjóði alltaf upp hæsta mögulega öryggi. Euro NCAP leggur alltaf þunga áherslu á að bíleigendur geti treyst matinu sem frá þeim kemur.

Euro NCAP framkvæmir árekstrarprófanir á nýjum ökutækjum og veitir neytendum raunhæft og óháð mat á öryggi vinsælla bíla sem eru á markaði á Evrópska efnahagssvæðinu. Euro NCAP hóf starfsemi 1997 að frumkvæði FIA, alþjóðasamtaka bifreiðaeigenda. Miklum fjármunum hefur verið varið í þetta mikilvæga verkefni sem hefur það markmið að auka öryggi bifreiða í umferð, koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum.

Hringtorgin draga úr hraða

Verkfræðistofan EFLA vann rannsóknarverkefni þar sem skoðað var samspil hönnunar hringtorga og umferðarhraða í þéttbýli og dreifbýli. Helstu niðurstöður sýna að hraði við innog útkeyrslur hringtorga í þéttbýli er meiri en æskilegt er. Hringtorg í dreifbýli draga almennt séð úr umferðarhraða en hönnun á slíkum hringtorgum er síður æskileg í þéttbýli.

Dróni og myndgreining notuð til að rannsaka hraða ökutækja

Til að meta hraða ökutækja voru myndbönd myndgreind í samstarfi við Logiroad. Hraði í ákveðnum sniðum var borinn saman til að meta áhrif hringtorga á hraða ökutækja og ýmsa hönnunarþætti þeirra, s.s. stærð miðeyju og radíus inn- og útkeyrslu. Ýmsar aðrar upplýsingar fást úr myndgreiningu,

Meiri hraði í tvíbreiðum hringtorgum

Niðurstöðurnar sýna einnig að hraði er meiri í tvíbreiðum hringtorgum (hringtorg með tvær akreinar í sömu akstursstefnu). Ástæðan fyrir því er að ökutæki hafa þá möguleika á að nýta sér breiddina til að hraða á sér. Vegna þessa og að sökum skerðinga á sjónlengdum er ekki ráðlagt að láta gangandi og hjólandi þvera hringtorg sem hafa tvær akreinar í sömu akstursstefnu án þess að vera með sérlausnir. Svíar hafa til

Fram kemur að síðastliðið ár vann EFLA að verkefni um aksturshraða á hringtorgum sem styrkt var af Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Í rannsókninni var notast við dróna til að mynda ökutæki sem keyrðu um hringtorg. Skoðuð voru sex hringtorg, fjögur á höfuðborgarsvæðinu og tvö utan þéttbýlis en leyfilegur hámarkshraði var sá sami við öll hringtorgin í þéttbýli (50 km/klst.) og í dreifbýli (70 km/ klst).

til dæmis flokkar ökutækja og greining akstursleiða.

Niðurstöður verkefnisins sýna meðal annars að hringtorgin draga öll markvisst úr hraða ökutækja en þó mismikið. Niðurstöður sýna að 85%1 hraði við inn- og útkeyrslu mældist yfir 30 km/klst fyrir öll hringtorgin í þéttbýli. Þar sem gangandi og hjólandi vegfarendur þvera götur er hins vegar æskilegt að 85% hraði sé um og undir 30 km/klst.

dæmis leyst þetta með því að hafa millimiðeyjur fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur staðsettar á milli akreina í sömu akstursstefnu.

Hringtorg í dreifbýli draga úr hraða Helstu niðurstöður fyrir hringtorg utan þéttbýlis gefa til kynna að hringtorg í dreifbýli (sænsk hönnun) séu góð leið til að draga úr hraða ökutækja fyrir utan þéttbýli en þau henta hins vegar ekki vel innan þéttbýlis. Með það til hliðsjónar þjóna hringtorg utan þéttbýlis vel hlutverki sem þéttbýlishlið og draga úr hraða ökutækja þegar þéttbýli nálgast.

NÝIR BÍLAR 2020

Nú er árið 2020 komið vel á veg og nýir bílar streyma í umboðin með loforð um minni útblástur, aukin þægindi, öryggi og tækni.

FÍB blaðið hafði samband við helstu bílaumboðin hér heima og óskaði eftir upplýsingum um við hverju mætti búast frá þeirra framleiðendum árið 2020 og í stuttu máli má búast við yfir 40 nýjum tegundum og uppfærslum inn á markað.

Þess ber að geta að þessi samantekt er ekki tæmandi þar sem ekki var horft til bíla sem fengu andlitslyftingu (e. facelift) en við höfðum þá bíla sem verður boðið upp á með nýrri driflínu.

Af þessari samantekt má sjá hversu mikil sprenging hefur orðið í framboði á rafmagnsbílum og þá sérstaklega bílum sem verða í boði í tvinn- og tengiltvinnútgáfu.

Taka skal tillit til þeirra umhleypinga sem eiga sér stað um allan heim vegna veirusýkinga og er enn óvíst hvaða áhrif það eigi eftir að hafa á bílaframleiðendur og umboð.

Minni bílar

Opel Corsa Electric

Bíllinn verður í fyrsta sinn í boði sem 100% rafbíll með 50 kWst rafhlöðu sem skilar bílnum yfir 300 km í drægni.

Áhugaverður kostur í ört stækkandi flóru minni rafbíla.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 3.690.000 krónur

Söluaðili: Bílabúð Benna

Mini Electric

Mini kominn með rafmótor og 35 kWst rafhlöðu. Skemmtileg viðbót við ört stækkandi flóru rafbíla.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 4.190.000 krónur

Söluaðili: BL

Honda E

Margir búnir að bíða spenntir eftir þessum litla rafmagnsbíl frá Honda. 50/50 þyngdardreifing og sprækur mótor lofa góðu.

Hvenær: Júlí

Verð frá: 3.950.000 krónur

Söluaðili: Askja

VW e-UP

Þessi minnsti bíll frá VW kom fyrst á markað 2011. Nú er búið að uppfæra útlit, öryggisbúnað og verður bíllinn eingögnu í boði með rafmótor og 36,8 kWst rafhlöðu.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 3.290.000 krónur

Söluaðili: Hekla

Fiat 500ev

Fyrsti 100% rafbíllinn frá Fíat og verður hann byggður á uppfærðum Fíat 500 grunni.

Hvenær: Liggur ekki fyrir.

Verð frá: Liggur ekki fyrir.

Söluaðili: Ísband

Nýr og endurhannaður bíll með sportlegt útlit.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 2.250.000 krónur

Söluaðili: Hyundai umboðið

Toyota Yaris

Nýr og endurhannaður frá grunni. Styttri, breiðari og lægri með aukið innrarými. Væntanlega í boði með nýrri 3 sílendra hybrid vél og síðan bensín.

Hvenær: Október

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Toyota

Honda Jazz Hybrid

Bíllinn hefur nú verið endurhannaður og með nýtt útlit.

Eingöngu í boði sem Hybrid. Þá verður einnig boðið uppá upphækkaða “Crosstar” útgáfu.

Hvenær: Júní

Verð frá: Liggur ekki fyrirr

Söluaðili: Askja

Peugeot 208e

Eins og stóri bróðir þá hefur 208 Peugeot fengið hraustlega uppfærslu og endurhannaður frá grunni. Verður í boði með sem 100% rafbíll, bensín eða dísil. Kosinn bíll ársins í Evrópu 2020

Hvenær: Kominn

Verð frá: 2.650.000

Söluaðili: Brimborg

Mercades Benz A class

Þessi fjórða kynslóð kemur nú í tengiltvinnútgáfu með 15,6 kWh rafhlöðu sem á að skila bílnum allt að 70 km

Hvenær: Júní

Verð frá: Liggur ekki fyrirr

Söluaðili: Askja

Renault Clio

Fimmta kynslóð af Clio, nýr bíll sem er byggður frá grunni. Fáanlegur í bensín, dísil og tvinnútgáfu.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 2.850.000

Söluaðili: BL

Millistærð

Peugeot 508e

Tengiltvinn útgáfa er væntanleg þar sem drægni á rafmagni er rúmlega 50 km. Með samvinnu rafmagns og 1.6 lítra bensín mótor mun bíllinn skila 222 hestöflum.

Hvenær: Nóvember

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Brimborg

KIA X-CEED PHEV

Eins og margir aðrir bílar þá verður Ceed í boði sem tengiltvinnbíll og drægni á rafmagni rúmlega 50 km.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 4.470.000 krónur

Söluaðili: Askja

VW ID3

Það ríkir mikil eftirvænting eftir þessum fyrsta VW sem er hannaður frá grunni sem rafbíll. ID3 er fyrsti rafbíllinn af mörgum í ID línuni sem mun deila sama undirvagni. Verður í boði með 45 - 82 kw rafhlöðu

Hvenær: Í sumar

Verð frá: Liggur ekki fyrir.

Söluaðili: Hekla

Mercades Bens B-Class

B-class mun deila sömu vélrás og A-class. 15,6 kWh rafhlöðu sem knýr áfram 75kw rafmótor og 1.3 túrbo bensín mótor. Samtals 215 hestöfl sem skila bílnum í hundrað á innan við 7 sekúndum.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 5.790.000 krónur

Söluaðili: Askja

VW Golf VIII

Áttunda kynslóð af þessum vinsæla fjölskyldubíl frá VW. Stærðar hlutföll svipuð og frá sjöundu kynslóð en bíllinn mun hafa lægri loftmótsöðu. Ekki í boð 100% rafmagn þar sem VW ID3 mun taka við.

Hvenær: Maí

Verð frá: Liggur ekki fyrir.

Söluaðili: Hekla

Jepplingar og minni jeppar

Volvo XC40 PHEV

Þessi litli jepplingur frá Volvo er nú kominn í tengiltvinn útgáfu og mun einnig koma sem 100% rafbíll með allt að 400 hestafla mótor undir lok ársins.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 5.350.000 krónur

Söluaðili: Brimborg

Mazda MX30

Nýr 100% rafmagnsbíll frá Mazda, 35,5 kWst rafhlaða skilar bílnum rúmlega 200 km. Skemmtileg hönnun sem verður áhugavert að fylgjast með.

Hvenær: Október

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Brimborg

M.Benz GLA

Önnur kynslóð af minnsta smájeppanum frá Benz, eins og margar aðrar útgáfur frá framleiðandum þá mun bíllinn koma í tengiltvinnútgáfu ásamt bensín og dísilútgáfu.

Hvenær: Ágúst

Verð frá: 7.490.000 krónur

Söluaðili: Askja

Ford Kuga

Nýr bíll sem er stærri á alla kanta að innan og utan, kemur í tengiltvinn sem býður upp á rúmlega 50 km drægni á rafmagni. Einnig verða hybrid, bensín og dísil útfærslur í boði.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 4.950.000 krónur

Söluaðili: Brimborg

Jeep Renegade PHEV

Eins og svo margir framleiðendur mun Jeep bjóða upp á tengiltvinnútgáfu af Renegade. Bíllinn verður með rafmagni á afturhljólum og eldsneyti á framhjólum. Því mun bíllinn geta stýrt afli til allra hjóla

Hvenær: Sumar

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Ísband

Nissan Juke

Kærkomin uppfærsla af vinsælum smájeppa og verður í boði með fram- og fjórhjóladrifi. Nánar má lesa um bílinn á reynsluaksturssíðum aftar í blaðinu.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 3.990.000 krónur

Söluaðili: BL

Renault Capture

Önnur kynslóð af Captur borgarjeppnum, eins og Clio er bíllinn byggður nýr frá grunni en bílarnir deila sama undirvagni.

Hvenær: Júlí

Verð frá: 3.690.000 krónur

Söluaðili: BL

Peugeot 2008e

Nýr og endurhannaður Peugeot 2008. Bæði í boði sem 100% rafmagn, bensín og dísil.

Hvenær: Maí

Verð frá: 4.490.000 krónur

Söluaðili: Brimborg

M.Benz GLB

Áhugaverður nýr jepplingur sem mun fylla í skarðið á milli M. Benz GLA og GLC.

Hvenær: Ágúst

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Askja

BMW X1

Borgarjeppinn frá BMW verður nú í boði með 1,5 lítra 3 sílendra turbó bensínmótor og rafmótor sem skila um 220 hestöflum.

Hægt verður að aka um 50 km á hreinu rafmagni í hverri hleðslu.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 5.990.000 krónur

Söluaðili: BL

Hyundai Tucson MHEV

Þriðja kynslóð hefur nú fengið andlitslyftingu og verður fáanlegur með MHEV (Mild Hybrid) kerfi á dísil mótor.

Hvenær: Júlí

Verð frá: 6.190.000 krónur

Söluaðili: Hyundai umboðið

M.Benz GLC + Coupe

Fyrsta kynslóð fær andlitslyftingu og verður í boði sem tengiltvinn 2.0 lítra bensín og 90 kW rafmótor sem skila samtals 315 hö. Þá koma einnig bensín og dísilútgáfur.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 8.590.000 krónur

Söluaðili: Askja

M.Benz EQA

100% rafmagnsbíll með aukinni veghæð. Stefnt að kynningu í lok árs.

Hvenær: Desember

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Askja

MMC Eclipse Cross PHEV

Bíllinn hefur nú fengið uppfært útlit og verður væntanlegur í tengiltvinnútgáfu sem verður ekki ósvipuð því sem þekkist úr stærri bróður bílsins Outlander.

Hvenær: Haust

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Hekla

Opel Grandland X

Kemur í tengiltvinnútgáfu þar sem bensín og rafmótor munu skila allt að 300 hestöflum.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 3.990.000 krónur

Söluaðili: Bílabúð Benna

BMW X3

X3 fæst nú einnig í tengiltvinnútgáfu og skila bensín og rafmótor frá sér samtals 292 hestöflum. Drægni á rafhlöðu allt að 50 km skv. framleiðenda.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 7.650.000 krónur

Söluaðili: BL

Peugeot 3008 PHEV

Tengiltvinn uppfærsla, verður boðið upp á tvær afl útgáfur 225 hestöfl framhjóladrifinn og 300 hestöfl fjórhjóladrifinn.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 4.450.000 krónur

Söluaðili: Brimborg

Jeep Compass PHEV

Eins og með Renegade verður Compass einnig í boði sem tengiltvinnútgáfa. Um sömu driflínu er að ræða þar sem 1.3 bensínmótor starfar með rafmótor og munu þeir skila samtals 240 hestöflum.

Hvenær: Sumar

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: Ísband

Stærri jeppar

Land Rover Defender

Einn þekktasti jeppinn í bílasögunni hefur verið endurhannaður og færður til framtíðar. Kemur bæði í stuttri og langri útgáfu. Áhugaverður bíll með skemmtilega sögu.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 11.000.000 krónur

Söluaðili: BL

Kia Sorento

Nýr Sorento með gjörbreitt útlit og stærri á alla kanta. Verður í boði með dísil, tengiltvinn og tvinn útgáfu.

Hvenær: Væntanlegur

Verð frá: 7.990.000 krónur

Söluaðili: Askja

SsangYoung Korando

SsangYoung hefur endurhannað Korando frá grunni og verður hann framleiddur jafnt með bensín og dísil mótor. Þá mun bíllinn einnig verða í boði 100% rafmagn með drægni yfir 300 km.

Hvenær: Maí

Verð frá: 5.000.000 krónur

Söluaðili: Bílabúð Benna

M.Benz GLE

Fjórða kynslóð af arftaka M línuni mun nú koma í tengiltvinnútgáfu með allt að 96 km drægni. Hægt verður að velja um rafmótor með bensín- eða dísilvél.

Hvenær: Ágúst

Verð frá: 10.890.000 krónur

Söluaðili: Askja

Izusu D-Max

Nýr pallbíll frá Isuzu hannaður frá grunni í samstarfi við Mazda. Verður í boði með 1,9 lítra dísil mótor og 3,5 tonna dráttargetu.

Hvenær: September

Verð frá: Liggur ekki fyrir

Söluaðili: BL

Volvo XC90

Bíllinn hefur nú fengið andlitslyftingu ásamt stærri rafhlöðupakka í tengiltvinnútgáfunni sem skilar bílnum allt að 30 km á rafmagni skv. framleiðenda.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 11.090.000 krónur

Söluaðili: Brimborg

Ford Explorer

Sjötta kynslóð mun koma í sölu í sumar. Bíllinn hefur verið byggður upp frá grunni og verður væntanlegur í tvinn útfærslu.

Hvenær: Júlí

Verð frá: 11.500.000 krónur

Söluaðili: Brimborg

M.Benz GLS

Þriðja kynslóð er orðin enn stærri og mun bjóðast með af þessum stóra sjö manna bíl mun verða í boði með tengiltvinnútgáfu jafnt bensí og dísil.

Hvenær: Kominn

Verð frá: 16.190.000 krónur

Söluaðili: Askja

Jaguar Land Rover með rafmagn í öllum línum

Í samræmi við stefnu sína um að bjóða alla bílgerðir Jaguar Land Rover með rafmótor frá og með 2020 hefur verksmiðja fyrirtækisins í Castle Bromwich í Bretlandi nú verið undirbúin fyrir breytingarnar því að 2021 kemur flaggskip Jaguar, stóri lúxusbíllinn XJ, á markað sem 100% rafbíll en framleiðslu sama bíls með núverandi drifrás hefur verið hætt.

hannaður, þróaður og framleiddur í Bretlandi og fluttur út til fleiri en 120 landa um allan heim frá árinu 1968. Rafknúin útgáfa XJ mun að stórum hluta byggja á fagurfræðilegri arfleifð forvera síns ásamt rómuðum afköstum og munaði.

Hönnuðir og verkfræðingar nýja bílsins verða þeir sömu og tryggt hafa Jaguar I-Pace helstu verðlaun í bílaheiminum vestanhafs og austan á umliðnum mánuðum. Ákvörðun stjórnenda Jaguar Land Rover um að hrinda í framkvæmd ákvörðun um endurnýjun lífdaga Jaguar XJ mun tryggja áframhaldandi störf þúsunda starfsmanna fyrirtækisins í Bretlandi ásamt því sem ákvörðunin markar nýtt skref í orkuskiptum fyrirtækisins.

Jaguar XJ hefur verið á markaði í rúma fimm áratugi og á þeim tíma gengið yfir átta kynslóðaskipti samfara stöðugri tækniþróun og breyttum straumum og stefnum í bílgreininni. Þessi rúmgóði og stóri lúxusbíll hefur frá upphafi verið

Í upphafi þessa árs var tilkynnt um nýja framleiðslulínu fyrir nýja drifrás rafhlöðu og rafmótors (EDU) sem sett verður upp í verksmiðjunni í Miðlöndunum auk þess sem verksmiðjan þar verður stækkuð og endurbætt á ýmsan máta.

Ný samsetningarmiðstöð Jaguar Land Rover fyrir rafhlöður, sem tekur til starfa

í Hams Hall á næsta ári, mun afkasta 150 þúsund framleiðslueiningum á ári og verður hún sú fullkomnasta sinnar tegundar í Bretlandi.

Ásamt vélaverksmiðjunni (EMC) í Wolverhampton munu verksmiðjurnar tvær bera hita og þunga af framleiðslu næstu kynslóða bíla frá Jaguar Land Rover sem allar verða boðnar með rafmótor, ýmist sem tvinnbílar eða hreinir rafbílar.

Í samræmi við þá skuldbindingu Jaguar Land Rover að framleiða rafknúna bíla í Bretlandi er það jafnframt nauðsynlegt að mati fyrirtækisins að stjórnvöld og aðrir bílaframleiðendur í Bretlandi taki höndum saman um að setja á stofn afkastamikla rafhlöðuverksmiðju í landinu sem framleiði minni, afkastameiri og ódýrari rafhlöður en nú eru fáanlegar á markaðnum.

Þessi mikilvægu skref munu einnig styðja við og efla núverandi aðfangakeðju og gera Bretland óháðara þeim erlendu mörkuðum sem nú þjónusta breska bílaiðnaðinn.

FIA og Formula 1 vinna saman í loftslagsmálum

Heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og bifreiðaíþróttafélaga, FIA, og Formúla 1, ein þekktasta kappaksturskeppni heims, hafa undirritað samning við Sameinuðu þjóðirnar um aðgerðir í loftslagsmálum. Með samningnum skuldbindur FIA sig til að auka sjálfbærni í umhverfinu.

Forsvarsmenn Formúlu 1 sendu frá sér yfirlýsingu undir lok síðasta árs þar sem markmiðið verður að allar keppnir á þeirra vegum verði kolefnislausar fyrir 2030.

Við undirritun samningsins verða FIA og Formúla 1 að fylgja eftir fimm meginreglum:

Bæði umhverfisaðgerðir FIA á heimsvísu og víðtæk markmið þess um að vera kolefnislaust fyrir 2030 uppfylla þessar kröfur. Með þessari undirritun kemur fram skýr ásetningur beggja aðila, FIA og Formúlu1, um að vinna vel saman í þessum efnum.

Jean Todt, forseti FIA, sagði við undirritunina að þetta væri stór áfangi í

1. Ráðast í kerfisbundið átak sem stuðlar að meiri umhverfisábyrgð.

2. Draga úr heildaráhrifum í loftslagsmálum.

3. Standa að fræðslu um aðgerðir í lofslagsmálum.

4. Efla sjálfbærni og ábyrga neyslu.

5. Vera öflugir talsmenn í lofslagsmálum fyrir milligöngu samfélagsmiðla.

loftslagsmálum og væru samtökin, sem teldust stór á heimsvísu, að leggja sitt af mörkum til að hafa umhverfið hreinna og betra.

Chase Carey, formaður og forstjóri Formúlu 1, sagði að fyrsta skrefið í aukinni sjálfbærni hefði verið tekið undir lok síðasta árs. Við verðum öll að vinna saman og takast á við þær loftslagsbreytingar sem við stöndum frammi fyrir.

„Aðgerðir sem við munum grípa til á næstum árum hafa það markmið að draga úr gróðurhúsaáhrifum. Við erum ánægð að starfa á þessum vettvangi með Sameinuðu þjóðunum og samstarfið með FIA og öðrum aðilum á eftir að skila sér. Markmiðin eru að minnsta kosti skýr,“ sagði Carey.

Dýrir bílar stoppa síður

Ólíklegra er að ökumenn dýrari bíla stöðvi bíla sína fyrir vegfarendur sem fara yfir gangbrautir. Þetta kemur fram í bandarískri rannsókn sem var birt í tímaritinu Journal of Transport & Health.

Vísindamenn sem unnu að rannsókninni fylgdust með hundruðum bíla við gangbrautir á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum, þar sem ökutækjum er skylt samkvæmt lögum að stöðva. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að líklegra var að eigendur ódýrari bíla myndu stöðva fyrir gangandi vegfarendur heldur en þeir sem óku dýrari bílum. Verðmæti bíla sem stöðvaðir voru taldist að meðaltali 5.900 dollarar en verðmæti hinna, sem ekki stöðvuðu, var 8.000 dollarar og yfir.

Dr. Courtney Coughenour við Háskólann í Nevada, sem stýrði rannsókninni, sagði að túlka mætti niðurstöðurnar með ýmsum hætti. Ein væri sú að samkennd og réttlætiskennd væri hærri hjá þeim sem ættu ódýrari bíla.

Meðalaldur fólksbílaflotans að hækka

Bílgreinasambandið spáir því að um 12.750 nýir fólksbílar verði skráðir árið 2020 en það gerir um 10% aukningu frá árinu sem er að ljúka. Samkvæmt bæði Arion banka og Íslandsbanka er spáð lítils háttar vexti í einkaneyslu fyrir næsta ár.

Þá hefur stórkaupavísitala Gallups, sem mælir meðal annars hversu líklegt er að neytendur festi kaup á bifreið á næstu sex mánuðum, hækkað í síðustu þremur mælingum miðað við sama tíma á síðasta ári. Að sama skapi eru vextir í sögulegu lágmarki og gæti það ýtt undir sölu á nýjum bílum.

Meðalaldur fólksbílaflotans er einnig að hækka en stórir árgangar í bílaflotanum eru komnir á meðalaldur sem í fyrra var 12,3 ár og fer hækkandi. Uppsöfnuð fjárfestingaþörf bílaleigna mun hafa áhrif á fjölda seldra nýrra fólksbíla árið 2020 en nýskráðir fólksbílar til bílaleigna í ár voru um 30% undir sölu þeirra á árinu 2018. Meðalaldur bílaleiguflotans er einnig að hækka og um 20% flotans eru nýir bílar sem er töluvert lægra en hefur verið síðustu 4 ár.

Fram kemur í upplýsingum frá Bílgreinasambandinu að einnig séu jákvæðar breytingar þar sem Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur nú skilað af sér í áliti vegna frumvarps um breytingar á ýmsum lögum um skatta (vistvæn ökutæki o.fl.). Þar er m.a. er fjallað um ívilnanir vegna rafmagns-, vetnis-, og tengiltvinnbíla næstu árin.

Þar er lagt til að hækka ívilnanir til rafmagns- og vetnisbíla en einnig tekur nefndin undir sjónarmið Bílgreinasambandsins og leggur til að frumvarpinu verði breytt á þann hátt að það framlengi enn frekar ívilnanir vegna tengiltvinnbíla ásamt því að hækka fjöldamörk þeirra ökutækja upp í 15.000 í stað 12.500. Á næsta ári munum við einnig að sjá aukið úrval rafmagns- og tengiltvinnabíla koma á markað.

Reynsluakstur: Nissan Juke

Nissan Juke vakti mikla athygli þegar hann kom fyrst á markað fyrir tíu árum og seldist mun betur en framleiðandinn hafði vonað. Í öllum heimsálfum gekk salan afar vel og þá ekki síst í Evrópu. Það er óhætt að segja að fólk skiptist í tvo hópa þegar útlit bílsins er tekið fyrir. Annar hópurinn finnst teikning á bílnum sérlega góð og stingandi en öðrum finnst bíllinn ekki fallegur og grófur, ef eitthvað er. Það ríkti talsverð eftirvænting fyrir annarri kynslóð bílsins, nýjasta módelinu frá 2020, enda voru framleiðendurnir búnir að boða talsverðar breytingar og margir biðu spenntir. Bíllinn, sem tekinn var í reynsluakstur, var af útgáfunni N-Connecta.

Á margan hátt breyst til hins betra

Var biðin þess virði? spyrja eflaust einhverjir. Á margan hátt hefur bíllinn breyst til hins betra og þar vegur mest að rýmið er meira en í gamla bílnum. Fótarými farþega í aftursætinu er meira og eins hefur breidd, lengd og hæð aukist og gerir það bílinn álitlegri kost en áður. Hinu verður ekki breytt að enn er þröngt fyrir þrjár fullvaxna manneskjur í aftursætinu. Ágætlega fer um ökumann en satt best að segja mætti útsýnið vera beittara en of stór spegill dregur úr sýn. Annað rými hefur stækkað töluvert og má í því sambandi nefna skottplásssið sem er nú um 422 lítrar en var áður 354 lítrar. Þar munar um minna og kemur sér vel, sérstaklega á ferðalögum.

Býr yfir ágætis krafti — varadekk í bílnum

Bílnum er hins vegar talið til tekna að hann er hlaðinn tæknibúnaði og er meiri bíll en áður. Notalegt er að vita af hita í framrúðum, veglínuskynjara, regnskynjara og sjálfvirk há/lág ljós svo að dæmi séu tekin. Í bílnum er varadekk sem er gleðilegt og framfaraspor. Mikið öryggi er því samfara. Hann býr yfir ágætis krafti en vélin er 117 hestöfl en hafa verður í huga að þetta módel er 25 kg léttara en hið eldra. Fyrri eigendur Nissan Juke verða örugglega áþreifanlega varir við að fjöðrunin er betri en áður. Bíllinn er sérlega hljóðlátur og hefur fengið hól fyrir góða sjálfskiptingu. Þess má geta að undirvagninn er hinn sami og er undir Renault Clio og Nissan Micra. Vélin er þriggja strokka bensínvél með forþjöppu og vonast framleiðendur til, ef spár ganga eftir, að með hausti verði kominn á markað tengiltvinnbifreið.

Bílnum er hins vegar talið til tekna að hann er hlaðinn tæknibúnaði og er meiri bíll en áður.

Skottplásssið er nú um 422 lítrar en var áður 354 lítrar. Þar munar um minna og kemur sér vel, sérstaklega á ferðalögum.

Álitlegur kostur til bílakaupa

Nissan Juke N-Connect FWD

Aflrás: 1.0 3 cylendra turbo bensín

Hámarksafl: 117hö við 5.250 sn.

Hámarkstog: 180 Nm við 17504000 sn.

Verð frá: 4.050.000 kr.

Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 6,1 l/100 m.eyðsla Losun CO2: 139 g/km

Eiginþyngd: 1192 kg

Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.209 / 1.801 / 1.595

Veghæð (mm): 170 mm.

Tækni, öryggisbúnaður, fjöðrun.

Pláss, útsýni

Það fer ekki framhjá neinum að hönnun bílsins er nútímavædd. Það gefur bílnum svolitla sérstöðu að aftari hurðarhandföng eru fest á bak við gluggana. Öllum má vera ljóst að framleiðendur bílsins hafa lagt sig fram við að hafa þennan bíl öðruvísi og það hefur tekist á mörgum sviðum. Passað er enn fremur upp á öryggið og þar má nefna brekku- og bremsuaðstoð og hemlajöfnun,ekki síst neyðarhemlun sem greinir gangandi og hjólandi vegfarendur. Það gefur ökumanni ákveðna öryggiskennd að vita af blindshornsviðvörun með stýrisaðstoð. Miðað við stærðarflokk og það sem betur mætti fara er Nissan Juke álitlegur kostur til bílakaupa.

Reynsluakstur: Peugeot 208e

Vel flestir kannast við þá nostalgíu sem ríkir í kringum þá bíla sem maður þekkti á uppvaxtarárunum. Reglulega lendir maður í samræðum við aðra bílaáhugamenn um þá bíla sem áttu stærstu sögurnar og sigra á götunum á hverjum tíma þegar ökuskírteinið var brakandi ferskt í vasanum. Bílprófstímabilið mitt var einmitt um síðustu aldamót þegar Hondur VTI og Subaru Impresur Turbo voru að sigra heiminn, að manni fannst. Og svo var það auðvitað Peugeot 205 GTI sem var í raun litli bíllinn sem gat, með sinn1900 mótor og 140 hestöfl. 205 Peugeotinn er nú að mestu horfinn af götum bæjarins en það kviknaði einhver vonarneisti þegar ég sá fyrstu myndir af nýja 208 bílnum og þá sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hönnuðirnir hjá Peugeot og Citroen hafa í auknum mæli sótt í fyrri hönnun til að glæða nýjustu bíla persónuleika fyrri tíma.

Að utan

Að utan lítur bíllinn einstaklega vel út, sérstaklega í ljósi þess að um smábíl er að ræða. Bíllinn er með grimman framenda og einkenndi Led–dagljósalínu sem liggur frá framljósum og niður á framstuðara. Grillið er samlitt bílnum með blöndu af háglans svörtum lit en það er eitt af fáum einkennum sem aðskilur rafmagnsbílinn frá bensínbílnum. Prufubíllinn var í Active útfærslu en það er minnst búna útgáfan en á eftir henni kemur síðan Allure og að lokum GT. Þrátt fyrir að vera með „ódýrustu“ útgáfuna bar bíllinn það ekki með sér í útliti. Svartir háglans brettakantar, vindskeið á þaki og þótt ótrúlegt sé þá var bíllinn bara á þokkalegustu hjólkoppum. Það er síðan ekki fyrr en í dýrustu útgáfu að bíllinn fær að auki Led–framljós, skyggðar rúður og auðvitað álfelgur sem koma einnig í Allure–útgáfunni.

Að innan

Þegar sest er inn í bílinn er alveg ljóst að um smábíl er að ræða. Mælaborðið og innréttingin umlykur mann, eins og búast má við af Peugeot, og er það alls ekki meint á slæman hátt. Þrátt fyrir að vera smábíll hefur ekki verið dregið úr íburði og minnir mælaborðið mjög á stærri bíla þó að það sé minna í sniðum. Það var sérlega ánægjulegt að sjá hliðræna (e. analog) mæla með gamaldags nál skila öllum helstu upplýsingum á eins einfaldan máta og hægt er. Þannig er rafhlöðustaðan t.d. skilgreind eins og um bensíntank sé að ræða. „Hálf rafhlaða eftir“ sagði mér í raun ekki mikið en þær upplýsingar nægja ágætlega þegar maður er farinn að þekkja bílinn. Aksturstölvan í bílnum gat hins vegar veitt nákvæmar upplýsingar um hversu mikið hálf rafhlaða þýddi fyrir drægni mína miðað við aksturslag.

þar sem stýrið er lítið með góðu haldi en mikilvægast er að þar er stýrisgangurinn mun fínni og því hægt að ná fullri beygju með því að snúa aðeins hálfhring. En eins og flestir fólksbílar eru í dag þarf að snúa stýrinu mun meira og því er óhjákvæmilegt að losa gripið af því. Þetta getur verið sérstaklega óþægilegt ef maður notar aðeins eina hönd til að beygja sem er reyndar í andstöðu við „tíu mínútur í tvö“ regluna hans Sverris ökukennara.

Óreglulegur hringur gerir stýrið því óþjált. Bíllinn fær hins vegar hrós fyrir hversu stíft stýrið er og rásfestu í þjóðvega akstri sem skilar sér í afslappaðri keyrslu.

Áður er haldið er lengra er gott að koma því á framfæri að bíllinn er 1483 kg í eigin þyngd og heil 1910 kg að heildarþyngd. Þetta eru tölur sem maður býst við að sjá í stórum fólksbílum eða jafnvel í jepplingum. Þyngin er nær öll tilkomin vegna 50 kWst rafhlöðupakkans sem liggur undir bílnum og að því gefnu má hæla hönnuðum fyrir góða og skemmtilega fjöðrun. Það er lítil sveigja á yfirbyggingu (e. body roll) þrátt fyrir krefjandi beygju sem skila stýri og afli vel niður í malbikið. Bíllinn er þokkalega sprækur upp en getur verið latur þegar kemur

að upptaki yfir 60 km/h og gott að hafa það bakvið eyrað þegar kemur t.d. að framúrakstri.

Endurhleðslubremsan mætti vera snarpari og ekki í boði að stilla tregðuna eins og sumir bílaframleiðendur eru komnir með. BBremsan virðist geta mun meira en til þess að hún taki almennilega við sér þurfti að stíga létt á bremsufetilinn.

Uppgefin drægni á bílnum við bestu aðstæður eru um 340 kílómetrar og mun ég ekki draga það í efa þar sem ekki gafst tími til langtíma prófana.

Öryggi

Í árekstrarprófum Euro NCAP fékk bíllinn fjórar af fimm stjörnum og var hann einna slakastur þegar kom að öryggi gangandi vegfarenda. Meðal staðalbúnaðar í öllum útfærslum má nefna neyðarhemlun, veglínuskynjara og umferðaskiltalesara. Í Allure bættist við fjarlægðarskynjari að aftan og síðan í GT–útgáfunni kom bakkmyndavél og fjarlægðarskynjari að framan. Það má velta fyrir hvers vegna bakkskynjarar og myndavélar séu ekki orðnar að staðalbúnaði í öllum útfærslum í dag.

Niðurstaða

Það kemur ekki á óvart að bíllinn hafi fengið nafnbótina bíll ársins í Evrópu 2020. Hann er allegur að utan óháð útfærslu, með veglega innréttingu og góða aksturseiginleika. Hins vegar má ekki gleyma að þetta er lítill og lágur bíll sem er kannski ekki allra og ekki sá nytsamasti. Fyrir þá sem vilja vera í rafbílaliðinu og fá bíl með smá persónuleika er þetta skemmtilegur kostur. Og er ég ekki frá því að hann hafi gefið mér smá nostalgíu um þá tíma þegar maður þeystist um á Subaru Justy og lét sig dreyma um Peugeot GTI.

Peugeot 208e

Aflrás: 100 kW rafmagnsmótor

Hámarksafl: 136 hö.

Hámarkstog: 260 Nm.

Verð frá: 4.050.000 kr.

Rafhlaða: 50 kWst.

Rafmagnsnotkun (WLTP): 15,3

kWh/100km

Drægni skv. framleið.: 340 km.

Losun CO2: 0 g/km

Eiginþyngd: 1483 kg

Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.055 / 1.745 (án spegla) / 1.430

Veghæð (mm): 119 mm.

Útlit, aksturseiginleikar

Stærð, staðalbúnaður

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
FÍB Blaðið 1.tbl. 2020 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu