Skip to main content

FÍB Blaðið 1. tbl. 2019

Page 1

1.tbl. 2019

F É L A G

Í S L E N S K R A

B I F R E I Ð A E I G E N D A

ÖRYGGIS PRÓFUN barnabílstóla

PROCAR

SVINDLIÐ

HVERSU OFT ÞURFUM VIÐ

AÐ BORGA VEGINA? 1


Mosfellsbæ

Skúlagötu

Skeifunni

Öskjuhlíð

Bíldshöfða Sprengisandi

Kópavogsbraut

BYKO Breidd

Búðakór

Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi) Kaplakrika

Birgðastöð Hafnarfjarðarhöfn

Egilsstöðum Fagradalsbraut 15

Stykkishólmi

Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi

VELDU ÞÍNA STÖÐ! Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika Hveragerði Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ

ATLANTSOLÍA

Reykjanesbæ - Njarðvík Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum - Fagradalsbr.15

FÍB

FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 15 krónu afslátt á valinni Atlantsolíustöð.

2

Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.


MEIRA FYRIR

FÍB FÉLAGA

HJÁ ATLANTSOLÍU 15 kr

afsláttur

EF KEYPT ER 150 L EÐA MEIRA

EF KEYPT ER 150 L EÐA MINNA

12+3 KR 10+3 KR

3


Varahlutir í bílinn Ve r ks mið ju á byrgð á þ í n u m b í l er tr y g g ð m eð vot t u ð u m va rah l u tu m f rá Sti l l i n g u

Smursíur

Rafgeymar

Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar

Tímareimar og vatnsdælur

Kúplingar

Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir

546

Allt fyrir bílinn St il l in g hf. | Sí mi 5 2 0 8 0 0 0 | w w w. s t i l l i n g . i s | s t i l l i n g @ s t i l l i n g . i s


Procar-svindlið og aðgerðarleysi stjórnvalda

ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA

Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson HÖFUNDAR EFNIS: Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Róbert Már Runólfsson Runólfur Ólafsson Guðni Þ. Ölversson Prófarkalestur: Snorri G. Bergsson Ljósmyndir: Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Róbert Már Runólfsson Guðni Þ. Ölversson UMBROT/AUGLÝSINGAR Björn Kristjánsson bjorn@fib.is Prentun Prentsmiðjan Oddi UPPLAG 18.000 FÍB-blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 8.220.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA

Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Fax: 414-9998 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is

Procar-svikin, sem ljóstrað var upp um í fréttaskýringaþættinum Kveik á Ríkissjónvarpinu 12. febrúar sl., kalla á viðbrögð og aðgerðir af hálfu stjórnvalda og markaðarins til að auka öryggi og neytendavernd í bílaviðskiptum og endurheimta traust á markaði með notuð ökutæki. Það þarf að vinna að úrbótum til framtíðar og halda opinbera skrá um þau ökutæki sem átt hefur verið við með sviksamlegum hætti.

Enn á eftir að innleiða hér á landi evrópska tilskipun nr. 2014/45/ESB um reglu-bundnar prófanir á aksturshæfni vélknúinna ökutækja og eftirvagna sem var tekin upp í EES-samninginn 30. apríl 2015. Í tilskipuninni segir m.a. að röng kílómetrastaða teljist meiri háttar annmarki við mat á aksturshæfni ökutækis. Einnig er ákvæði um að þeir sem eigi við kílómetramæla ökutækja sæti refsingu. Þetta þarf að innleiða strax í íslenskan rétt.

Procar-svindlið hefur dregið úr trausti neytenda í viðskiptum með notuð ökutæki og skaðað neytendur og fyrirtæki fjárhagslega. Á markaðnum eru ökutæki með skráninguna ,,bílaleiga“ í eigenda- eða umráðaferli mun lakari og verðminni vara en áður. Fram hefur komið að bílaleigubílar eru óvenju hátt hlutfall af bílaflota landsmanna. Það eru um að 77 bílaleigubílar á hverja 1.000 íbúa hér á landi á móti 4–6 bílaleigubílum á hverja 1.000 íbúa á öðrum Norðurlöndunum. Hátt hlutfall bílaleigubíla í endursölu notaðra ökutækja á Íslandi eykur á mikilvægi aðgerða og aðhalds opinberra aðila. Það er nauðsynlegt að halda opinbera skrá um ökutæki sem sannanlega hafa niðurfærða kílómetramæla. Rannsaka þarf hvort slík vinnubrögð hafi verið stunduð víðar en hjá Procar. Markmiðið er að ná sem best utan um umfang svikanna og aðstoða fólk við að leita réttar síns.

Nýlega kom fram í fréttum að málverk eftir Stefán V. Jónsson frá Möðrudal, Stórval, hafi verið fölsuð. Talið er að falsanirnar séu nýjar en óttast að fjölmörg verk séu í umferð. Málið er til skoðunar hjá héraðssaksóknara og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sagði í viðtali við Ríkisútvarpið 6. mars sl. að málið væri grafalvarlegt og að hún væri slegin yfir svindlinu. Lilja sagði að ráðuneyti hennar og önnur ráðuneyti þyrftu að koma að þessu máli og bætti við að byrjað væri að skoða og fara yfir málið í menntamálaráðuneytinu.

Þegar þetta er skrifað er Procar ehf enn í fullum rekstri þrátt fyrir að hafa viðurkennt stórfelld svik og auðgunarbrot. Lögregla gefur aðeins þær upplýsingar að verið sé að skoða mál fyrirtækisins og sömu fréttir berast frá Samgöngustofu. FÍB hefur ítrekað komið því á framfæri við lögreglu og Samgöngustofu að málið þoli ekki frekari tafir til að verja rannsóknarhagsmuni, koma verði í veg fyrir samkeppnisbrot og vernda neytendur.

Stórvalssvindlið varðar mun minni fjárhagslega hagsmuni fyrir neytendur en Procar-svindlið. Menntamálaráðherra á hrós skilið fyrir að grípa strax til aðgerða vegna málverkafölsunarinnar. Engin viðbrögð hafa komið á rúmum mánuði frá ráðherra neytendamála, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur eða ráðherra samgöngumála, sem Samgöngustofa heyrir undir, Sigurði Inga Jóhannssyni vegna niðurfærslu kílómetramæla ökutækja sem seld hafa verið grandalausum kaupendum. FÍB skorar á ráðherra þessa, Samgöngustofu og lögregluna að bregðast strax við því óöryggi og tjóni sem þegar hefur skapast vegna ólögmætrar sölu bílaleigubíla með falsaða kílómetrastöðu.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri 5


Að mörgu að hyggja

Holur í malbiki Holur í malbiki hafa valdið mörgum ökumönnum miklum óþægindum og skráveifu á síðustu misserum og alveg sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Í þessu sem mörgu öðru er eins og sveitarfélögin sofi þyrnirósarsvefni og aðhafist ekkert fyrr en vandinn blasir við. Margir bifreiðaeigendur hafa sett sig samband við FÍB og segja frá skemmdum sem bifreiðar þeirra hafa orðið fyrir þegar þær fóru ofan í djúpar holur. Þetta ástand á ekki að koma á óvart þeim sem eiga að passa upp á að þessir hlutir séu í lagi, enda 6

árvisst fyrirbæri. Því ætti að vera hægðarleikur að minnsta kosti að minnka skaðann og bregðast við með skjótari hætti en gert er. Margir bifreiðaeigendur standa uppi í sumum tilfellum með mikið tjón sem enginn er tryggður fyrir. Eigandinn situr í súpunni og þarf að greiða úr eigin vasa. Á undanförnum árum hafa orðið miklar skemmdir á bifreiðum, sem farið hafa ofan í djúpar holur, og síðastliðinn vetur skemmdust tugir bíla í einni og sömu holunni á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Aðilar sem þarna áttu að sjá um viðhald brugðust seint og illa við ástandinu með tilheyrandi tjóni. Í þessu tilfelli slasaðist sem betur fer enginn. Þetta er áminning um að bregðast verður við með mun skjótari hætti en gert hefur verið fram að þessu. Svifryk Fyrstu vikuna í mars fór styrkur svifryks fór upp úr öllu valdi á bæði höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Ýmsir þættir eru þess valdandi að slíkt gerist. Í því sambandi er hægt að benda á hálkuvarnir sem þyrla upp setlögum með tímanum og enn fremur berst mikið ryk frá óvörðum byggingarsvæðum og þungum vörubílum sem bera aðföng til og frá byggingasvæðum innan um þétta byggð. Í þessari umræðu vekur athygli hversu seint sveitarfélögin grípa til aðgerða í ljósi þess að oft í aðdraganda þessa ástands eru veðurfarsleg skilyrði ákjósanleg til að sópa og hreinsa götur. Um er að ræða þekkt vandamál sem sveitarfélög og Vegagerðin verða að taka alvarlega og vinna gegn á skipulagðan og skynsamlegan hátt.

Efnisyfirlit 8 Procar: Svindlið hefur undið upp á sig 9 Aðgerðir til að endurheimta traust 10 Veggjöld eru nýir skattar 14 Umferðarlagabrotum fjölgar 15 Svíar herða reglur um vetrardekk 16 Skránin getur haft áhrif á söluverð 19 Smurþjónusta bílaleigu- og einkabíla 20 Erlendir gestir nýta sér bílaleigubíla 21 Engin bíll sjálfvirkur 22 Andstaða gegn veggjöldum í Noregi 22 Tækni þróuð gegn bílveiki 23 Green NCAP: Áreiðanlegri upplýsingar 24 Hringvegurinn um Vaðlaheiðagöng 25 FIA og ólympíuhreyfingin í samstarf 25 Hámarkshraði veldur titringi 26 Sólarrafhlöður auka orkunýtingu 26 Rafbílar í Noregi 27 Ný þvottastöð dregur úr mengun 27 Léttskoðun bifreiða 28 Öryggi barnsins í bílnum 38 Reynsluakstur: M.Benz G500 42 Reynsluakstur: Suzuki Jimny 46 Reynsluakstur: Toyota RAV4 49 Gefandi að hjálpa fólki 50 Bílar og Íslendingar á Spáni 52 Tilbúnir þegar kallið kemur 52 Ómetanlegt að geta leitað til FÍB 53 Vaka endurnýjar bílaflotann 53 Félagsmanni blöskrar verðið

Jón Kristján Sigurðsson Ritstjóri

ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 91074 02/19

U

m þessar mundir virðist vakning eiga sér stað í þjóðfélaginu um hve brýnt er að samgöngumál og vegakerfið almennt sé byggt á traustum grunni. Vegakerfið er ein af grunnstoðum okkar og landsmenn gera kröfu um að geta treyst á það. Stjórnvöld gera sér vonandi grein fyrir mikilvægis þess að umræddur þáttur samfélagsins sé eins vel úr garði gerður og kostur er. Öryggið skiptir mestu og þegar því er skipað í öndvegi þurfa samgönguleiðir að vera í lagi. Allir sem um vegina fara vita að töluvert hefur skort upp á að þessir hlutir séu í lagi. Fjármagn sem ætlað er að byggja upp og viðhalda vegakerfinu fer ekki í þá framkvæmd sem því er ætlað. Þetta er sorgleg staðreynd og því hefur uppbygging setið á hakanum með öllum þeim afleiðingum sem blasa við. Taka þarf til hendinni og mikið verk blasir við á næstum árum í allri innviðauppbyggingu. Lítið var gert árin eftir hrun og vegakerfið og vegirnir fengu svo sannarlega að kenna á því. Nú verður ekki aftur snúið en stjórnvöld gera sér grein fyrir alvarleikanum. Aðeins þarf að bretta ermar og taka til hendinni.


NÝR RAV4 ALHLIÐA SPORTJEPPI. ALHLIÐA HYBRID.

ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 91074 02/19

Við viljum hafa pláss fyrir allt Lífið tekur breytingum með tímanum. Börnin stækka, þeim fjölgar, áhugamálin breytast, ferðalögin lengjast. Það sem ekki breytist er að við þurfum pláss fyrir alla og allt sem þeim fylgir. Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun bilið í bílakaupunum. Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is

Frá því að RAV4 sló fyrst í gegn hefur nánast allt breyst. Fimmta kynslóð þessa alhliða sportjeppa er stökkbreytt í útliti; glæsilegri með skarpari línur, voldugri á vegi og enn meiri breidd í getu, styrk, þægindum og afköstum. Nýr RAV4 er alhliða Hybrid, hljóðlátur í akstri með aukið svigrúm fyrir fólk og farangur. Ný kynslóð með enn meira öryggi og ríkulegum staðalbúnaði. Allt er breytt – nema vinsældirnar. Komdu, sjáðu og finndu muninn á nýjum RAV4 með sjö ára ábyrgð hjá næsta viðurkennda söluaðila. 2 ára þjónustupakki fylgir með nýjum RAV4, viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

3+4 ÁBYRGÐ

2 ÁRA ÞJÓNUSTA

Toyota Kauptúni Kauptúni 6

Toyota Akureyri Baldursnesi 1

Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19

Toyota Selfossi Fossnesi 14

Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega þann búnað sem tilgreindur er. Fyrirvari við 7 ára ábyrgð: Ökutækinu skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans og ber eigandi kostnaðinn við slíkt viðhald. Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds.7 Gildir eingöngu um bíla sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf. Birt með fyrirvara um villur.

HVÍ TA HÚSI Ð / SÍ A

Nú er 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Toyota bifreiðum.


PROCAR Svindlið hefur undið upp á sig

S

íðan upp komst um svindlið hjá bílaleigunni Procar hefur málið heldur betur dregið dilk á eftir sér. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur á Ríkissjónvarpinu sagði fyrst frá málinu en bílaleigan hafði átt við kílómetramæli bíla áður en þeir voru seldir. Einstaklingur sem tengdist rekstri bílaleigunnar aflaði þessara gagna og afhenti Kveik. Í umfjölluninni kom einnig fram að gögn þessi sýni að tugir þúsunda kílómetra hafi verið teknir af akstursmælum í tugum bíla. Frá því að málið komst í hámæli hefur ýmislegt komið upp á yfirborðið en ljóst má vera að málið er stórt sniðum, mun stærra en talið var í upphafi. Það á eflaust eftir að taka tíma til að komast til botns í þessu máli. Kveikur hefur upplýsingar um

8

tæplega 100 bíla sem bílaleigan Procar hefur átt við kílómetrastöðuna í og hafa verið seldir. Eflaust eiga mun fleiri bílar eftir að koma fram í sviðsljósið en allt málið hefur tekið á sig nýja mynd með hverjum deginum sem líður. Stór hópur manna hefur haft samband við Draupni lögmannsþjónustu í von um að fá bætur vegna viðskipta sinna við bílaleiguna Procar. Bílaleigan hefur viðurkennt að átt hafi verið við akstursmæla notaðra bíla sem síðar voru seldir. Procar seldi um 650 notaðar bifreiðar árin 2013 til 2016 en ekki liggur fyrir í hversu mörgum þeirra hafi verið átt við akstursmælinn. Mögulega voru þær 100 til 120 talsins.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir að samgönguráðherra hafi frestað reglugerð um aðalskoðun bifreiða vegna þrýstings frá bílaleigum. Hann skorar á ráðherra að taka nú reglugerðina upp úr skúffunni. Allt þar til síðla árs 2009 voru bílaleigubílar skoðaðir árlega á grundvelli þess að þeim er ekið mun meira en öðrum fólksbílum. Síðan var því breytt þannig að bílaleigubílar voru settir undir sama hatt og fjölskyldubílar sem koma ekki til skoðunar fyrr en þeir eru orðnir fjögurra ára gamlir. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að núverandi fyrirkomulag sé alls ófullnægjandi og engin rök séu fyrir því að ekki skuli skoða bílaleigubíla árlega líkt og leigubíla til dæmis. Hann segir að í janúar í fyrra hafi átt að breyta regluverkinu eftir að rannsóknarnefnd umferðarslysa lýsti áhyggjum af ástandi bílaleigubíla. Samgöngustofa hafi tekið undir þær áhyggjur og Jón Gunnarsson, þáverandi samgönguráðherra, hafi verið búinn að gefa sitt vilyrði fyrir breytingunni. Þá hafa nokkur bílaumboð hvatt bíleigendur til að hafa samband til að fá aðstoð ef grunur leikur á svikinni kílómetrastöðu. FÍB og Bílgreinasambandið hafa kannað hjá bílaumboðunum hvort aksturstölvur geymi raunverulegan akstur þó að átt hafi verið við mælastöðu en svo virðist ekki vera nema í örfáum tilfellum í dýrari gerðum bíla. Mögulega geta upplýsingar um gangstundir bílvéla varpað ljósi á heildarakstur.


Aðgerðir til að endurheimta traust og bæta tjón

H

vernig er hægt að bregðast við því óöryggi og tjóni sem hefur skapast vegna ólögmætrar sölu bílaleigubíla með falsaða kílómetrastöðu? Hvernig er hægt að endurheimta traust almennings og vinna að úrbótum til framtíðar? Þetta og fleira til var rætt á fundi sem FÍB, Samtök ferðaþjónustunnar, Neytendasamtökin, Bílgreinasambandið og Samgöngustofa héldu í framhaldi af fréttum um sviksamlegt hátterni Procarbílaleigunnar. Bílgreinasambandið hefur opnað fyrir aðgang á vefsíðu sinni (www. bgs.is) að ökutækjaskrá fyrir þá sem vilja kanna hvort tiltekinn bíll hafi verið til umráða hjá bílaleigu en í eigu fjármögnunarfyrirtækis, ásamt því að sjá skoðunarferil bílsins og fleiri upplýsingar. Upplýsingar um umráðamenn eru alla jafna ekki sýnilegar almenningi. Fram kom hjá fulltrúum Samgöngustofu að í þessari viku verði bréf sent til allra 140 skráðra bílaleiga þar sem óskað verður eftir upplýsingum um fyrirkomulag skráninga á kílómetrastöðu og hvernig best sé að koma í veg fyrir svik af því tagi sem hér um ræðir. Samgöngustofa ítrekar að opinbert eftirlit geti aldrei komið að fullu í veg fyrir brotastarfsemi. Aftur á móti geti verið ástæða til að gera úttektir með stikkprufum. Fram kom að Samgöngustofa muni ráðast í breytingar á ökutækjaskrá þannig að sérstök athygli verði vakin á því ef kílómetrastaða er skráð lægri við skoðun en áður. Á það var hins vegar bent að alla jafna eru bílaleigubílar seldir áður en til fyrstu

skoðunar kemur fjórum árum frá skráningu. Rætt var hvort krefjast ætti árlegrar skoðunar bílaleigubíla þar sem þeim er ekið talsvert meira á ári en venjulegum einkabílum. FÍB og Neytendasamtökin hafa talið eðlilegt að tryggja hagsmuni og öryggi almennings að þessu leyti með svipuðum hætti og í nágrannalöndunum. FÍB hefur bent á að úrtaksskoðanir á vegum Samgöngustofu og samanburður útleigusamninga og kílómetrastöðu sem einu leiðirnar til lausnar í þessum efnum. Fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar benti á að hagsmunir bílaleiga fælust í að bílar þeirra væru ávallt í góðu ástandi. Gott viðhald væri forgangsmál hjá fyrirtækjunum og árleg skoðun bætti þar litlu við. Fundarmenn voru sammála um að hvetja lögreglu til að hraða rannsókn á þeim svikamálum sem upp hafa komið. Hið fyrsta þyrfti að komast til botns í því við hvaða bíla hefði verið átt og hvort slík vinnubrögð hafi verið stunduð víðar en hjá Procar. Þannig mætti ganga úr skugga um umfang svikanna og aðstoða fólk við að leita réttar síns. Á það var bent að hér á landi væru um 25 þúsund skráðir bílaleigubílar en grunur um falsaða kílómetrastöðu beindist aðeins að nokkur hundruð þeirra. Ákveðið var að hittast aftur fljótlega til að meta framvinduna. Vonast er til að þetta samstarf marki upphaf að vinnu til framtíðar til að tryggja sem best hag neytenda á markaði með alla notaða bíla.

Frá því að fréttaskýringaþátturinn Kveikur upplýsti um umfangsmikil og skipulögð svik bílaleigunnar Procar við sölu notaðra bíla, þar sem kílómetrastaða þeirra var færð niður, hafa þeir sem eiga gamla bíla frá leigunni reynt að sannreyna hvort átt hafi verið við bílana. Fram hefur komið að erfitt gæti reynst að fá einhvern botn í málið. Hópur eigenda gamalla Procarbíla hefur fengið lögmann til að gæta hagsmuna sinna. Bílaumboðin geta eftir því sem næst verður komist ekki geta sannreynt raunverulegan kílómetrafjölda en fyrir liggi að hundruð bíla hafa verið trekktir. Síðustu vikur hafa fjölmargir leitað til lögmanna bílaleigunnar á Draupni lögmannsstofu í von um að fá svör um hvort átt hafi verið við bílana þeirra. Einhverjir hafa þegar fengið svör á meðan aðrir bíða. Lögreglan hefur ekki veitt neinar upplýsingar um stöðu rannsóknar. Kveikur hefur hins vegar upplýsingar um að lögreglunni hafi borist kærur vegna Procar-málsins, og, að fleiri séu á leiðinni. Lögmaður hópur eigenda gamalla Procar-bíla sagði í þættinum forsendur fyrir því að kyrrsetja eignir bílaleigunnar. Lögmaðurinn sagði ennfremur að núna liggi fyrir að þúsundir manna sem hafa sennilega orðið fyrir tjóni. Og það tjón þarf að bæta og það liggur þá líka fyrir væntanlega að menn hafi hagnast á þessum svikum og þá er heimild til þess að kyrrsetja eigur þeirra sem hagnast á þessu, kyrrsetja eigur sakborninga. Það hafi komið til greina að fara fram á kyrrsetningu hjá sýslumanni. 9


Veggjöld eru nýir skattar ofan á háa skatta sem bíleigendur og umferð bera nú þegar

U

mræðan um veggjöld hefur verið í hámæli í allan vetur enda er um að ræða eldheitt mál meðal landsmanna. Í skoðunarkönnunum hefur komið fram að meirihluti þjóðarinnar er andvígur veggjöldum. Mikil andstaða er jafnframt við vegtolla í umsögnum til Alþingis vegna samgönguáætlunar 2019–2034. Því er ljóst að veggjöldin eru þverpólitískt mál og hart verður tekist á í meðförum þess á yfirstandandi vorþingi og eins í haust. Samgönguáætlun með breytingartillögum meirihlutans var afgreidd í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í byrjun febrúar þar sem samgönguráðherra er meðal annars gert að útfæra veggjöld vegna framkvæmda á helstu stofnleiðum í kringum höfuðborgarsvæðið.

og lýstu nokkrir nefndarmenn efasemdum um veggjöld eins og þau eru lögð fram í samgönguáætlun og gera fyrirvara við nefndarálit meirihlutans. Nefndarmenn sem gagnrýna veggjöldin segja að röng vinnubrögð séu höfð til að koma þeim á og hlutur höfuðborgarinnar og suðvesturhornsins mjög fyrir borð borinn. Þau séu langt frá því útfærðar og leggjast ekki jafnt á íbúa landsins.

Af öllu má vera ljóst í þessu máli að mikil vinna blasir við hvað alla útfærslu áhrærir. Margir hafa harðlega gagnrýnt að ekki sé til kostnaðargreining á því hvað kosti að setja upp, innleiða og reka innheimtukerfi. Þar þurfi að líta til þátta eins og virðisaukaskatts veggjalda, innheimtuþóknunar, utanumhalds og rekstrarkostnaðar. Engin útfærsla liggur fyrir í þessum efnum og því sé alls óvíst hvað fyrirhuguð veggjöld muni þýða og kosta ríkisjóð þegar upp er staðið. Alla útfærslu vantar enn sem komið er á hugmyndum um veggjöld.

FÍB leggst einnig alfarið gegn vegtollum vegna þess að þar er verið að leggja nýja skatta ofan á háa skatta sem bíleigendur og umferð bera nú þegar. Vegtollar eru sagðir eiga að fara til aukinna vegaframkvæmda. Núverandi skattar á bíleigendur eru aðeins notaðir að hluta til í þeim tilgangi. Af um 80 milljarða króna skattfé sem áætlað er að bílar og umferð skili á næsta ári eiga 29 milljarðar að fara til vegaframkvæmda og vegaþjónustu. Rúmlega 50 milljarðar fara í önnur ríkisútgjöld. Fram hefur komið að vegtollar eigi að skila 10 milljörðum króna til viðbótar á ári. Bílaskattar verða þá komnir í 90 milljarða króna.

Samgönguráðherra þarf nú að fylgja málinu eftir með frumvarpi á vorþingi þar sem gjaldtaka og þau verk sem heyrðu undir þau yrðu útfærð nánar og síðan verður Alþingi að endurútfæra samgönguáætlun á haustþingi. Ekki er einhugur í umhverfis- og samgöngunefndinni 10

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, mótmælir yfirstandandi hraðferð vegtolla í gegnum Alþingi. Þessum nýju sköttum á bíla og umferð á bersýnilega að þröngva í gegn á sem stystum tíma til að koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu. Þessi vinnubrögð eru fullkomlega óboðleg að mati FÍB.

Fram hefur komi máli í Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra í viðtölum að engin ákvörðun liggi fyrir um veggjöld. Ráðherrann hefur varpað því fram hvort skynsamlegra sé að nota arðgreiðslur

Landsvirkjunar í uppbyggingu vegakerfisins og bíða með vegtolla í 4–5 ár. Enn fremur hefur ráðherra sagt að ekki skipti öllu máli hvort frumvarp um veggjöld komi fram í mars, apríl eða maí. Mest sé um vert að ná utan um málaflokkinn. Á sama tíma hefur Jón Gunnarsson, formaður umhverfisog samgöngunefndar og fyrrverandi samgönguráðherra, lýst því yfir að afgreiðsla samgönguáætlunar frá Alþingi sé tímamótaskref í upptöku vegtolla. Ljóst má vera af þessum yfirlýsingum að stjórnarliðar eru ekki samstíga í málinu. Í fimm ára samgönguáætlun er gert ráð fyrir 190 milljörðum til samgangna, þar af 160 í vegi. Meirihluti umhverfisog samgöngunefndar telur þörfina allt að 400 milljarða og vill að veggjöld brúi bilið eitthvað en minnihlutinn er ósammála því. Meirihluti nefndarinnar leggur til að veggjöld fjármagni vegaframkvæmdir á þremur svæðum til að auka öryggi. Á Suðursvæði 1 eru fjórir staðir: Brú á Ölfusá, Biskupstungnabraut og Kambar, Skeiðavegamót og Skógarhlíðabrekka í Þrengslum. Þetta eru 35 kílómetrar og kosta rúma 19 milljarða króna. Í Reykjavík og nágrenni eru 10 staðir, meðal annars Bæjarháls, Kjalarnes, Reykjanesbraut, Breiðholtsbraut og Grindavíkurvegur, alls um 50 kílómetrar og kosta 32 milljarða. Síðan er lagður til 30 kílómetra kafli á Akrafjallsvegi og kostar hann sex milljarða. Alls eru lagðir til 115 kílómetrar af framkvæmdasvæðum á Suður- og Vesturlandi og kosta þeir rúma 57 milljarða króna, fjármagnaðir af veggjöldum almennings.


ÞVOÐU ÚÐAÐU KEYRÐU AF STAÐ

ELD H T O K S A TVENN Skolið bílinn, blandið ÞVOTTI+VÖRN við vatn og þrífið bílinn með blöndunni. Skolið af, úðið með ÚÐA+VÖRN og skolið aftur. Það þarf ekki meira til. Lakkið hefur nú fengið fallegan gljáa, vatnsfráhrindandi yfirborð og endingargóða vörn gegn óhreinindum. Má nota á gler, plast og lakk. www.sonax.is 11


Betra vegakerfi borgar sig sjálft

Bílar og umferð standa undir allri uppbyggingu

Engin þörf er á sérstakri skattheimtu eða vegtollum til að borga uppbyggingu vegakerfisins. Umræddar úrbætur borga sig sjálfar og rúmlega það. Hér eru 10 atriði sem renna stoðum undir þessa niðurstöðu:

Bílar og umferð standa nú þegar undir allri uppbyggingu og rekstri vegakerfisins og gott betur. Engin þörf er á aukinni skattheimtu með vegtollum til að standa undir því. Hér eru 10 staðreyndir og ábendingar.

1. Í samgönguáætlun Alþingis kemur fram að samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum geti verið á bilinu 40-60 milljarðar króna á ári. Með betra og öruggara vegakerfi má lækka þennan kostnað árlega um 20-25 milljarða króna. Úrbæturnar borga sig því sjálfar.

1. Samtals er áætlað að skattar á innflutning og notkun bíla skili ríkissjóði 80 milljörðum króna árið 2019.

2. Flest umferðarslys verða á fjölförnustu leiðunum á suðvesturhorninu. Ávinningurinn af fyrirhuguðum úrbótum þjóðvega á því svæði er ótvíræður en nefna má að á tvöfalda kaflanum á Reykjanesbraut hafa engin banaslys orðið en fyrir tvöföldun voru þau eitt eða fleiri á hverju ári.

2. Aðeins hluti af heildartekjum ríkisins af bílum og umferð fer í nýbyggingu og viðhald vegakerfisins, eða 29 milljarðar af þessum 80 milljörðum króna. 3. Einkabíllinn er eina samgönguformið fyrir almenning sem skilar meiri tekjum í ríkissjóð en sem nemur kostnaði. Álögur á þunga atvinnubíla (vörubíla, flutningabíla og rútur) standa ekki undir kostnaði við það slit á og álag sem þeir valda í vegakerfinu.

3. Lækkun útgjalda sjúkrahúsa og endurhæfingarstofnana vegna umferðarslysa getur staðið undir afborgunum lána vegna öruggari þjóðvega til og frá höfuðborgarsvæðinu. Heildarútgjöld ríkissjóðs þurfa ekki að aukast um eina krónu.

4. Skattlagning á bíla og umferð á sér stað á margvíslegan hátt. Þar á meðal eru vörugjöld við innflutning bíla, bifreiðagjald, kílómetragjald af stórum bílum, eldsneytisskattar, kolefnisgjald og flutningsjöfnunargjald.

4. Samfélagslegt tap einstaklinga sem lenda í umferðarslysum og fjölskyldna þeirra gæti minnkað um 5-10 milljarða króna á ári. Minni kostnaður tryggingafélaga stuðlar að lægri iðgjöldum.

5. Virðisaukaskattur leggst ofan á öll viðskipti sem tengjast bílum og umferð. Þar á í hlut neytendaskattur sem almenningur stendur að öllu leyti undir með kaupum á vörum og þjónustu.

5. Minnkað álag á viðbragðsaðila með fækkun umferðarslysa dregur úr þörf þeirra fyrir framlög úr ríkissjóði.

6. Bifreiðagjald er bráðabirgðaskattur sem var lagður á þyngd bíla fyrir 30 árum til að staga upp í fjárlagagat. Það er enn innheimt og skilar nú 8 milljörðum króna í ríkissjóð.

6. Greiðar samgöngur með góðu vegakerfi stuðla að betri nýtingu innviða samfélagsins og þar af leiðandi hagvexti. 7. Greiðar samgöngur á suðvesturhorninu draga úr þrýstingi á samþjöppun íbúðabyggðar á höfuðborgarsvæðinu. Þær gera einstaklingum og fjölskyldum auðveldara að velja búsetu eftir þörfum og á ódýrari svæðum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, til hagsbóta fyrir alla. 8. Heildarávinningurinn af stórbættu vegakerfi kemur fram á öllum sviðum. Framleiðni þjóðfélagsins eykst. Greiðari umferð styttir ferðatíma og dregur úr mengun. Vöruflutningar verða ódýrari og þar með njóta bæði einstaklingar og fyrirtæki góðs af. Hreyfanleiki vinnuafls og fyrirtækja eykst. 9. Jarðgöng víða um land sýna best hve mikill ávinningur er af góðum og öruggum samgöngum. 10. Lántaka vegna samgöngubóta eru einhver besta fjárfesting sem ríkisvaldið getur tekist á hendur, auk þess að stuðla að heilbrigðari skuldabréfamarkaði. 12

7. Kolefnisgjald á eldsneyti var fyrst lagt á 2010. Þá skilaði það einum milljarði króna, núna 3,7 milljörðum. 8. Sveitarfélögin láta ekki sitt eftir liggja í gjaldtöku. Engar götur eru lagðar nema fyrst sé greitt gatnagerðargjald. Víða í stærri sveitarfélögum eru tekin bílastæðagjöld á miðlægum svæðum og slík gjaldtaka fer hratt vaxandi. 9. Orkuskiptin krefjast þess að ríkisvaldið hugi að nýjum leiðum til gjaldtöku af bílum og umferð sem miðast við afnot vegakerfisins. Lausnin felst ekki í vegtollum á stöku stað, frekar að greitt verði í samræmi við ekna kílómetra. Slíkt gjald gæti tekið mið af álaginu sem ökutækið veldur vegakerfinu með þyngd sinni og neikvæðum umhverfisáhrifum. Framkvæmd slíkrar gjaldtöku þarf ekki að vera flóknari eða dýrari en álestur á raforkumæla heimila. 10. Ástæða er til að benda á að auknum álögur ríkisvaldsins á bíla og umferð er meðal annars ætlað að niðurgreiða innanlandsflug fyrir einstaklinga sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu, óháð efnahag viðkomandi.


Hvað er svona slæmt við vegtolla

Skynsamlegar hugmyndir samgönguráðherra

Að sjálfsögðu fagnar FÍB áformum stjórnvalda um úrbætur á helstu þjóðvegum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Aftur á móti er FÍB alfarið á móti því að framkvæmdirnar verði fjármagnaðar með vegtollum. Hér eru 10 ástæður fyrir afstöðu FÍB til vegtolla.

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu 16. febrúar sl. segir Steinþór Jónsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, að full ástæða sé til að hrósa Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra og fleiri þingmönnum fyrir stórhuga áform um löngu tímabærar úrbætur á umferðarmestu þjóðvegum landsins til og frá höfuðborgarsvæðinu. Það er rétt hjá Sigurði Inga að við getum ekki beðið lengur eftir því að auka öryggi á þessum leiðum og bæta afkastagetu þeirra. Fullyrða má að allir séu því sammála.

1. Vegtollar eru mjög dýr leið til að hafa tekjur af umferðinni. Tal um 5% kostnað miðað við tekjur stenst ekki skoðun. Raunsærra er að áætla 15% þar sem umferð er mikil og 60-80% þar sem umferð er lítil. 2. Vegtollar eru mun kostnaðarsamari en aðrar innheimtuaðferðir stjórnvalda af bílum og umferð. Kostnaður við vegtolla felst m.a. í dýrum tækjabúnaði, hugbúnaði, tengingum, innheimtukostnaði, viðhaldi, endurnýjun og almennum rekstri. Í Hvalfjarðargöngum nam þessi kostnaður þriðjungi af tekjum. Virðisaukaskattur er jafnframt innheimtur af vegtollum. 3. Skyndileg áform um vegtolla fela í sér lýðræðishalla. Enginn þeirra sem nú talar fyrir vegtollum kynnti þann ásetning sinn fyrir síðustu kosningar. Kjósendur fengu ekki tækifæri til að taka afstöðu til slíkra hugmynda. 4. Vegtollar þýða aukna skattbyrði en þeir bætast við greiðslur sem umferðin skilar nú þegar. Engin áform hafa verið kynnt um að lækka aðra skattheimtu af bílum og umferð. 5. Vegtollar mismuna vegfarendum eftir búsetu og ferðatilgangi og leggjast þyngst á þá sem hafa minna aflögu. Ávinningur af búsetu á ódýrari svæðum fer fyrir lítið. 6. Það er lýðskrum að lofa þeim sem mest aka 90% afslætti af vegtollum. Greiðsla upp á 100-140 krónur stæði ekki undir innheimtukostnaði. Eigi þeir sem mest nota vegina að borga sama og ekkert munu vegtollarnir aldrei skila áformuðum tekjum. Fjarstæðukennt er að verðlauna þá sem mest aka og valda mestum umhverfisáhrifum. 7. Vegtollar á þjóðvegum til og frá höfuðborgarsvæðinu gera lítið til að létta áhyggjum stjórnvalda af minnkandi tekjum af eldsneytissköttum vegna fjölgunar rafbíla viðorkuskiptin. Akstur á þessum leiðum er aðeins hluti af heildarumferð á landinu á hverjum degi. 8. Fáheyrt er að innheimta sérstaka vegtolla vegna öryggisúrbóta og eðlilegrar uppbyggingar á grundvallar samgönguæðum þjóðfélagsins. Umferðin skilar nú þegar nægum tekjum til að standa undir þessum útgjöldum. 9. Reynsla erlendra þjóða sýnir að ríkisvaldið selur einkafyrirtækjum rétt til að eignast og reka fjölförnustu hluta samgöngukerfisins með vegtollum. Almennri umferð er breytt í arðbæra féþúfu. 10. Víða í útlöndum eru vegtollar réttlættir á þeim forsendum að vegfarendur eiga val um aðrar leiðir en seinfarnari. Ekkert slíkt er í boði þegar kemur að þjóðvegum til og frá höfuðborgarsvæðinu.

Steinþór segir í grein sinni að fjármögnun framkvæmdanna með vegtollum hafi hins vegar farið öfugt ofan í meirihluta landsmanna. Fólki finnst skattlagning á bíla og umferð nógu mikil nú þegar og aðeins hluti þess fjár skilar sér til vegamála. Vegtollar eru dýr og röng leið til að skattleggja umferðina. Þess vegna er fagnaðarefni að samgönguráðherra hefur vakið máls á annarri og skynsamlegri fjármögnunarleið en vegtollum, sem sé að nýta arð af opinberum fyrirtækjum. Það er alltaf virðingarvert þegar stjórnmálamenn kunna að bakka frá fyrri hugmyndum til að finna betri lausnir. Steinþór heldur áfram og segir: Rætt hefur verið um að ávaxta arð af Landsvirkjun í útlöndum til seinni tíma nota. Margfalt betri ávöxtun fæst af því að nota fjármunina nú þegar í úrbætur í vegakerfinu eins og samgönguráðherra hefur vakið máls á. Öruggari vegir og greiðari samgöngur skila sér í minni slysakostnaði og hagvexti. Reynslan af tvöföldun Reykjanesbrautar er besta dæmið um þennan ávinning. Að lokum segir Steinþór: Við erum öll í sama liði og öll notendur samgöngumannvirkja á einn eða annan hátt. Umferðaröryggi er okkar hjartans mál því slysin tengjast okkur öllum. Finnum leið til framkvæmda – saman. 13


BÍLAPRÓFUN FÍB VIÐTAL

Umferðarlagabrotum fjölgar í kjölfar aukins ferðamannastraums

E

ins og kunnugt er tók ný reglugerð um sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot gildi 1. maí fyrir tæpu ári síðan. Fram að því höfðu sektir fyrir umferðarlagabrot verið óbreyttar í rúm tíu ár. Mörgum fannst þær of lágar og hafa lítinn fælingarmátt. Sektir við umferðarlagabrotum eru til þess fallnar að veita ökumönnum aukið aðhald og stuðla þannig um leið að auknu umferðaröryggi. Til dæmis um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot fór sektin fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur úr 5.000 krónum í 40.000 krónur. Ölvun við akstur (hæstu sektir, vínandamagn í blóði 2,01 eða meira), fór úr 240.00 krónum í 320.000 krónur. Þvert á það sem búist hafði verið við hefur umferðarlagabrotum fjölgað til muna samkvæmt bráðabirgðatölum frá ríkislögreglustjóra. Umferðarlagabrotum fjölgaði um átta þúsund í fyrra miðað við árið á undan, þrátt fyrir miklar hækkanir. Alls voru 78 þúsund umferðarlagabrot skráð í fyrra og fjölgaði þeim um 12% frá árinu 2017. Langflest voru fyrir hraðakstur, rúmlega 61 þúsund og fjölgaði þeim um 11%. Flest mál komu jafnframt til vegna stafrænna hraðamyndavéla.

Umferðarlagabrotum fjölgar í flestum landshlutum, mismikið þó. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði þeim um hátt í sex þúsund, eða 15% í fyrra, 32% á Suðurnesjum og 90% á Vesturlandi. Mesta breytingin er á Norðurlandi

14

vestra, úr ríflega 3.000 brotum í um 7.500, sem er 145% aukning. Þar var ráðist í átak í byrjun síðasta árs og sinntu tveir lögreglumenn nær eingöngu umferðareftirliti. Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að í umræðunni um þessi mál verði að hafa í huga að umferð hafi aukist gríðarlega. Hingað koma 2,3 milljónir erlendra ferðamanna á hverju ári og þannig er ekki óeðlilegt að umferðarlagabrotum fjölgi. Þá mætti einnig benda á að löggæslumyndavélum hefur fjölgað. Vonuðum að fælingarmáttur hærri sekta væri slíkur að brotum myndi fækka „Lögreglan vinnur að umferðareftirliti eins og hún getur hverju sinni. Við sjáum ekki í fljótu bragði að mannskapur okkar eða tími hafi aukist þannig að við séum í rauninni að auka eftirlit okkar. Afskipti okkar eru fleiri og því má segja að dugur ungra lögreglumanna hafi ekki dalað. Fjölgun umferðarlagabrota má einkum rekja til aukinnar umferðar erlendra ferðamanna. Auðvitað vorum við að vona að fælingarmáttur hærri sekta væri slíkur að brotunum myndi fækka. Fólk þarf að fá hækkuðu sektina til að átta sig á því að það þarf að breyta hegðun eða mynstri sínu,“ sagði Guðbrandur. Hann sagði að stundum mætti ætla að sumir ferðamenn sem hingað

koma hefðu ekki mikla reynslu af akstri, einkum í snjó eða ísingu. Þeir væru ekki allir til fyrirmyndar, hvaða ástæða sem er fyrir því. Maður myndi ætla að margir ferðamenn sem hingað koma eigi ekki eða noti sjaldan bíl en ferðist jafnan heima fyrir með almenningssamgöngum. Hingað koma því óvanir ökumenn, taka bílaleigubíl og eru hreinlega óvanir akstri, ekki síst við íslenskar aðstæður. Guðbrandur sagði að frá 1. maí í fyrra, þegar nýju lögin tóku gildi og til síðustu áramóta, hafi lögreglan kært hátt í 900 ökumenn fyrir að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar. Lögreglan hefur aukið eftirlit sitt með farsímanotkun ökumanna því að sérlega mikil hætta þykir stafa af henni. Margir standa sig með prýði „Við viljum þó alls ekki vera einungis með neikvæðan áróður enda standa margir ökumenn sig með prýði og þessi söngur um að allir séu að tala í farsíma við akstur og að enginn gefi stefnuljós er að okkar viti rangur. Kannski gefa of fáir stefnumerki en heilt yfir standa flestir ökumenn sig vel. Margir ökumenn sýna ábyrgð, tillitssemi og mér finnst það hafa aukist. Hægt og bítandi eru íslenskir ökumenn að læra,“ sagði Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í spjalli við FÍBblaðið.


Svíar herða reglur um vetrardekk Á

næsta vetri koma til framkvæmda í Svíþjóð hertar reglur um vetrardekk og notkun þeirra. Þá verða M+S dekk (heilsársdekk) að vera með Alpa-snjókornamerkingu til að teljast hæf fyrir vetrarakstur. Í frétt í sænskum fjölmiðlum kemur fram að samgönguráðuneytið þar í landi leggi fram breytingu á skilgreiningunni á vetrardekkjum. Eldri skilgreingin, sú með M+S markinu, þykir ekki lengur duga heldur verða vetrardekkin nú að vera merkt með „Alpine peak/ snowflake“, eða svokölluðu 3 PMSFmerkið. Í raun standast mörg M+S merki ekki kröfur í vetrarakstri. Merkingin „Alpine peak/snowflake“ segir í raun að dekkin hafa ákveðna eiginleika og standast kröfur í vetrarakstri. Þau búa yfir meira öryggi en dekk með M+S merkingu. Einungis er verið að skerpa á málum og merkja öll þessi dekk með þessu, þar á meðal

vörubíladekk sem gerð eru fyrir vetrarakstur. Sérfræðingar á þessu sviði eru á einu máli um að þetta sé góð þróun. Flest öll vetrardekk sem eru seld hér á landi hafa 3 PMSFmerkið. Markmiðið með þessari breytingu er að auka öryggi í kringumstæðum sem skapast í akstri að vetrarlagi. Þetta hefur það í för með sér að ökumenn sem aka á M+S merktum dekkjum allt árið um kring verða að fara yfir á ný vetrardekk. Bráðabirgðareglur gilda til 31. desember 2024. Flestir ökumenn kannast við aðstæður sem skyndilega myndast á íslenskum vegum. Nýlegt dæmi um það má nefna að fyrr í vetur lenti fjórhjóladrifinn bíll á góðum heilársdekkjum í mikilli ísingu og ólýsanlegri hálku á Öxnadalsheiðinni. Alauður og þurr vegur virtist blasa

LÉTTSKOÐUN AÐALSKOÐUNAR Léttskoðun er fyrir þá sem eru að kaupa sér nýjan bíl og vilja ganga úr skugga um að bíllinn sé í góðu standi áður en hann er keyptur. Verð 6.100 kr.

www.adalskodun.is

við augum en bíllinn lenti á vegriði og kastaðist þaðan út af veginum. Ökumaður og farþegar sluppu við teljandi meiðsli. Líklega má telja að nagladekk hefðu hjálpað til við þessar aðstæður.

ATRIÐI YFIRFARIN Í LÉTTSKOÐUN: ∙Stýrisbúnað ∙Hjólabúnað ∙Aflrás ∙Hemlabúnað

Léttskoðun gildir eingöngu fyrir bíla tíu ára og yngri og fyrir bíla undir sex tonnum að heildarþyngd. Engar bókanir, þú mætir á staðinn 15 og við skoðum bílinn.


Skráningin getur haft áhrif N

ýskráning bíla hérlendis miðast við þegar bíllinn fer á götuna en ekki við framleiðsluár. Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að neytendur séu ekki alltaf meðvitaðir um þetta og getur skráningin haft áhrif á endursöluverð bílsins. Þegar nýr bíll kemur til landsins gæti hann hafa verið framleiddur ári fyrr. Þar að auki kann hann að standa óhreyfður í allt að ár áður en hann er afgreiddur úr tolli og settur á númer. Þá miðast skráningin ekki við hvenær hann er framleiddur, heldur við árið þegar hann er fyrst skráður á götuna. Óánægja með þetta fyrirkomulag Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, er óánægður með þetta fyrirkomulag. „Af því að bílar geta þess vegna verið búnir að standa lengi niðri á hafnarbakka og það hefur áhrif á endingu og gæði, fyrir utan að það hefur áhrif á markaðsvirði bílanna.“ Tryggingarfélagið skráir svo bílinn jafnvel eftir framleiðsluári og þá ræðst tryggingarfjárhæð af því. Runólfur nefnir nýlegt dæmi um bíl sem var framleiddur 2012, stóð á hafnarbakka í Noregi í eitt og hálft ár, var síðan fluttur til landsins 2014 og seldur rúmu hálfu ári síðar sem árgerð 2015. Fólkið sem keypti bílinn komst svo ekki að því fyrr en þremur árum síðar að bíllinn væri framleiddur 2012 en ekki 2015. „Og í millitíðinni höfðu komið upp ýmsir kvillar sem máttu rekja til þess að bíllinn stóð við slæmar aðstæður allan þennan tíma,“ segir Runólfur. Þessi skráning á aðeins við um ónotaða bíla sem bílaumboðin flytja inn. Þegar bílasölur eða einstaklingar flytja inn bíla miðast skráning þeirra við nýskráningu í útlöndum. „Í eðlilegu viðskiptaumhverfi á fólk að fá upplýsingar um allt sem 16

að snýr að vörunni sem það var að kaupa,“ segir Runólfur. „Og við förum fram á það að yfirvöld og þá hvet ég sérstaklega samgönguráðherra sem fer með þessi mál að taka þetta til endurskoðunar.“ FÍB-blaðið innti Samgöngustofu eftir því hver sjónarmið stofnunarinnar væru í málefnum sem snúa að nýskráningum bíla hérlendis. Svar Samgöngustofu var eftirfarandi: „Það ferli sem viðhaft er á Íslandi í ökutækjaskráningum er það sama og annars staðar í Evrópu. Helstu dagsetningar sem við skráum í ökutækjaskrá og sjást t.d. í ferilskýrslu ökutækisins: Forskráningardagsetning: Dagsetningin sem ökutækinu er úthlutað fastanúmeri í íslenskri ökutækjaskrá. Dagsetning forskráningar er því sá dagur þegar ökutækið kemur til landsins og getur gefið til kynna hversu langur tími er liðinn frá framleiðslu ökutækisins. Við forskráningu þá þurfa ökutæki að uppfylla ákveðnar kröfur s.s. um mengun, og hafa þessar kröfur sinn gildistíma. Það þýðir að ökutæki þurfa

Framan á mótor undir vélarhlíf

að vera forskráð innan ákveðinna dagsetninga sem fram koma í reglugerðum. Fyrsta skráning (B reitur í skráningarskírteini): Ef ökutæki hefur ekki verið skráð annars staðar, er þessi dagsetning sú sama og nýskráningardagsetningin. Ef ökutæki er skráð notað á Íslandi, þá kemur þessi dagsetning fram á erlendum skráningargögnum. Nýskráningardagsetning: Sú dagsetning sem ökutækið er nýskráð (skoðað og sett á númer) á Íslandi. Ef ökutækið hefur hvergi hlotið skráningu áður og er skráð nýtt, þá er þessi dagsetning sú sama og fyrsta skráning. Árgerð og framleiðsluár: Ef það kemur fram á skráningargögnum er það skráð, sérstaklega þegar um er að ræða ökutæki frá þriðja ríki (utan ESB). Þegar ökutæki koma á CoC vottorðum (ný evrópskt gerðarviðurkennd ökutæki) eins og

Mælaborði ökumannsmegin við framrúðu

Innanverðum hvalbak (Eldri bílar)


f á endursöluverð bílsins langflest af þeim sem skráð eru ný í dag, þá koma hvorki upplýsingar um framleiðsluár né árgerð fram á skráningargögnum. “

Nokkrar leiðir til að fá upplýsingar um árgerð og framleiðsluár ökutækis:

•

hafa samband við umboð viðkomandi ökutækis

• •

leita til evrópskt viðurkenndrar tækniþjónustu leita á netinu að þýðingarvélum fyrir verksmiðjunúmer (e. VIN Decoder).

Í öllum amerískum bifreiðum og sumum japönskum og evrópskum bifreiðum segir tíundi stafur til um árgerð bifreiðarinnar: A = 1980

E = 1984

J = 1988

N = 1992

T = 1996

Y = 2000

4 = 2004

B = 1981

F = 1985

K = 1989

P = 1993

V = 1997

1 = 2001

5 = 2005

C = 1982

G = 1986

L = 1990

R = 1994

W = 1998

2 = 2002

6 = 2006

D = 1983

H = 1987

M = 1991

S = 1995

X = 1999

3 = 2003

7 = 2007

A = 2010

E = 2014

J = 2018

N = 2022

T = 2026

8 = 2008

B = 2011

F = 2015

K = 2019

P = 2023

V = 2027

9 = 2009

C = 2012

G = 2016

L = 2020

R = 2024

W = 2028

D = 2013

H = 2017

M = 2021

S = 2025

X = 2029

Mynd: Samgöngustofa

Verksmiðjunúmer bílsins er hægt að finna á eftirtöldum stöðum á meðfylgjandi mynd.

刀䄀䘀䜀䔀夀䴀䄀刀 嘀攀氀搀甀 爀甀最最琀 猀琀愀爀琀 洀攀 渀‫ﴀ‬樀甀洀

Innan á hurðarstaf ökumannsmegin

匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀

17


NÝR JIMNY! ALVÖRU JEPPI

Það er fernt sem skilgreinir Jimny sem ekta jeppa: Sterkbyggð grind Mikil veghæð Heilar hásingar með gormafjöðrun Fjórhjóladrif með lágu drifi

18


Mismunur á smurþjónustu hjá Toyota

F

jölskyldubílar, sem keyptir eru af Toyota á Íslandi, eiga skv. þjónustu- og ábyrgðarbók að koma til smurþjónustu á 7.500 km fresti eða á 6 mánaða fresti. Í skoðuninni er m.a.skipt um olíusíu og smurolíu á vél. Þessar þjónustukröfur þarf að uppfylla til að viðhalda ábyrgðarskilmálum Toyota. FÍB hefur gögn undir höndum þar sem fram kemur að Toyota á Íslandi virðist gera aðrar kröfur til smurþjónustu bifreiða sem notaðar eru í útleigu (bílaleigubílar) heldur en gerðar eru til fjölskyldubíla. Í ljósi þess óskaði FÍB-blaðið eftir svörum við eftirfarandi spurningar:

1. Er það rétt að bílaleigubílar komi í smurþjónustu á 15.000 km fresti? Einhverjar bílaleigur sem kaupa bílaleigubíla af viðurkenndum söluaðilum Toyota hafa gert samning um að smurþjónustu og þjónustueftirliti sé sinnt á 15.000 km fresti. 2. Ef svo reynist, á hverju byggist sú ákvörðun? Sú ákvörðun byggir á því að bílar í einkaeigu eru að jafnaði keyrðir mun minna en bílaleigubílar og í skemmri tíma í senn. Lítill akstur og skemmri ökuferðir gera það að að verkum að meira sót safnast inn á vélina og hættara er við rakamyndunum. Þess vegna er oftar þörf á því að skipta um olíu í bílum í einkaeigu en bílaleigubílum. Árlegur meðalakstur bílaleigubíla er allt að 30 þúsund km en meðalakstur allra fólksbíla, samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu, er um 12.000 km á ári. 3. Ef svo reynist, hvaða áhrif hefur það á ábyrgðarskilmálana? Til að ábyrgðarskilmálar bílsins haldi gildi sínu þarf að þjónusta bílinn í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda. Þetta á jafnt við um bíla í einkaeigu og bílaleigubíla. Báðum aðilum ber því að tryggja og geta sýnt fram á að bíllinn hafi verið þjónustaður í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda. Framleiðandinn gefur

upp mismunandi kílómetrafjölda milli smur- og þjónustuskoðana eftir því á hvaða svæði viðkomandi bíll er notaður. Ísland fellur undir svokallaðar „erfiðar“ aðstæður og samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda ber að þjónusta bíla hér á 7.500 km fresti. Það grundvallast m.a. á litlum akstri bíla í einkaeigu á ársgrundvelli. Lítill akstur gerir það að verkum að meira sót safnast inn á vélina þar sem bílar hér á landi eru mun meira keyrðir kaldir og stuttar vegalengdir hverju sinni. Enn fremur er hætt við því að raki myndist í vélinni sem er ekki gott fyrir endingu hennar. Meðal annars af þessum ástæðum fer framleiðandi fram á að bílar hér á landi séu smurðir á 7.500 km fresti. Í tilviki bílaleigubíla er þetta ekki tilfellið, eins og fram kemur hér að ofan. 4. Hvernig samræmist það umhverfisstefnu Toyota að fjölskyldubílar komi allt að helmingi oftar í smurolíu- og olíusíuskipti og noti þar með allt að 100% meira magn af olíu og síum? Rétt er að geta þess hér Samtök atvinnulífsins valdi að Toyota á Íslandi ehf. umhverfisfyrirtæki ársins árið 2018. Toyota á Íslandi er eina bílaumboðið á Íslandi sem er með alþjóðlega umhverfisvottun samkvæmt ISO 14001. Reglulegt viðhald bíla, til að tryggja sem lengsta endingu þeirra, samræmist ágætlega umhverfisstefnu Toyota enda er mikilvægt að fjárfestingin sem einstaklingar leggja út í við bílakaup nýtist þeim sem allra best og eins lengi og kostur er. Þess má enn fremur geta að aukin sótmyndun vegna fyrrgreindra aðstæðna hér á landi eykur eldsneytisnotkun sem aftur eykur mengun og er því andstæð hagsmunum bíleiganda og umhverfisins. Ótímabær förgun bíla vegna ófullnægjandi viðhalds hefur veruleg umhverfisáhrif og, að mati Toyota á Íslandi, meiri áhrif en það að sinna reglulegu viðhaldi bílsins. Óskastaðan væri sú að aldrei þyrfti að skipta um olíu á bílum en því miður er það svo að smureiginleikar olíunnar haldast ekki endalaust og því þarf, eins

og áður hefur komið fram, að sinna smur- og þjónustueftirliti reglulega til að tryggja hámarksendingu bílsins. 5. Á 7 ára ábyrgðartíma Toyota fólksbíla munar umtalsvert um þann kostnað að koma með bifreið í smurþjónustu á 7.500 km fresti samanborið við 15.000 km fresti. Hvernig réttlætir fyrirtækið þann aukna kostnað neytenda? Að mati Toyota á Íslandi er hér ekki um „aukakostnað” að ræða. Fyrir liggur við sölu bílsins að þjónusta þurfi bílinn á 7.500 km fresti. Kaupandi er meðvitaður um það áður en viðskiptin eiga sér stað þannig að það á ekki að koma honum á óvart að þjónusta þurfi bílinn á 7.500 km fresti. 6. Nú virðist Toyota á Íslandi ehf. gera víðtækari kröfur til eigenda bíla hér á landi en gert er í nágrannalöndum okkar. Á hverju byggir þessi smurþjónustutíðni? Eins og áður segir fellur Ísland undir „erfiðar” aðstæður og þá bíla skal þjónusta á 7.500 km fresti samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans. Toyota á Íslandi ehf. er því ekki að gera ríkari körfur til eigenda bíla hér á landi. Um er að ræða kröfur framleiðandans og eins og áður segir liggja þær kröfur fyrir frá upphafi. 7. Geta núverandi eigendur fyrrum bílaleigubíla treyst á að ástand vélar og skiptinga sé í svipuðu ástandi og í sambærilegum bíl sem hefur verið í einkaeigu, þrátt fyrir minni tíðni smurþjónustu? Hafi viðkomandi bílalaleiga farið í einu og öllu að leiðbeiningum framleiðanda við þjónustu á bílnum á enginn munur að vera á ástandi þess bíls eða annars bíls sem hefur verið í einkaeigu, miðað við sambærilegan akstur beggja bíla. Í lokin má geta þess að 2 ára þjónustupakki (eða 30.000 km – hvort heldur kemur á undan) fylgir flestum Toyota bílum frá nýskráningardegi bílsins. Hið sama á við um alla Lexus bíla. 19


Stór hópur erlendra gesta nýtir sér bílaleigubíla

Í

rannsóknum sem fyrirtækið Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar vann kemur í ljós að 61% erlendra gesta sem nýttu sér bílaleigubíla árið 2017 óku að meðaltali um 1.560 km þann tíma sem þeir leigðu bílana, eða um 230 km á dag að jafnaði þá 6,8 daga sem leigan stóð. Heildarakstur á hvern leigusamning var að jafnaði lengstur í júlí, um 2.100 km, en stystur í janúar, um 940 km. Ferðamenn frá Benelux-löndunum nýta sér helst bílaleigubíla

Af íbúum einstakra markaðssvæða nýttu ferðamenn frá Beneluxlöndunum helst bílaleigubíla í ferð sinni á Íslandi árið 2017 (82%) en síðan gestir frá Suður-Evrópu (80%). Þá komu ferðamenn frá MiðEvrópu (66%), Norður-Ameríku (65%), Asíu (63%), ferðamenn utan helstu markaðssvæða (56%) og frá Norðurlöndunum (56%). Gestir frá

Bretlandseyjum ráku lestina (39%). Í skýrslunni kemur fram að áætlað sé að meðalakstur á bílaleigubílum á hverja útleigu árið 2017, flokkað eftir búsetu, hafi verið lengstur meðal gesta frá Asíu (2.090 km) og síðan meðal gesta frá Suður-Evrópu (1.950 km), Mið-Evrópu (1.940 km) og Beneluxlöndunum (1.900 km). Hann var mun styttri meðal gesta utan helstu markaðssvæða (1.470 km) og frá Norður-Ameríku (1.350 km). Stystur var meðalakstur bílaleigubíla meðal Norðurlandabúa (1.110 km) og Breta (1.070 km). Áætlað er að erlendir ferðamenn hafi á umræddu ári ekið bíleigubílum alls um 635 milljónir km á Íslandi (18% meira en 2016). Það samsvarar meðalakstri um 53 þúsund heimilisbíla á Íslandi miðað við 12 þúsund km akstur á ári. Í lok árs 2017 voru um 233 þúsund skráðir fólksbílar á landinu í eigu Íslendinga eða um 0,68 bíll á hvern íbúa. Því má áætla að akstur erlendra

ferðamanna á bílaleigubílum árið 2017 hafi verið um 23% af öllum einkaakstri Íslendinga það ár. Eldsneytisútgjöld erlendra ferðamanna námu 10,1 milljarði króna Sé miðað við 8 lítra meðaleyðslu bíla á hverja 100 km og eldsneytisverð að jafnaði 200 kr á lítra má lauslega ætla að eldsneytisútgjöld erlendra ferðamana vegna aksturs á bílaleigubílum á Íslandi árið 2017 hafi numið 10,1 milljarði króna. Til samanburðar má nefna að áætlað er að árið 2016 hafi erlendir ferðamenn ekið bílaleigubílum á Íslandi um 540 milljónir km, 270 milljónir km árið 2014 og um 90 milljónir km árið 2009. Því er áætlað að álag bílaleigubíla á vegakerfið, þar sem erlendir ferðamenn voru við stýrið, hafi verið um sjö sinnum meira árið 2017 en árið 2009 og 2,4-falt meira en árið 2014.

Tilkynning til félagsmanna FÍB Kæru félagsmenn, ákveðið hefur verið að hætta útgáfu Þjónustubókar FÍB. Alla afslætti og upplýsingar er hægt að nálgast á vefnum okkar FÍB.is. Þá verða lagðar auknar áherslur á gott aðgengi félagsmanna að ört stækkandi afsláttarklúbbi félagsins. 20

FÍB hvetur félagsmenn, sem fá heimsendan greiðsluseðil, að senda okkur skilaboð á fib@fib.is með nafni og kennitölu, til að óska eftir pappírslausri rukkun á árgjaldi. Þá stofnast bara krafa í heimabankanum, sparar bæði póstkostnað og pappírskostnað fyrir félagið. Verndum umhverfið


Enginn bíll á markaðnum býður upp á fulla sjálfvirkni

Hvar erum við stödd? Ökumaðurinn er fullkomlega ábyrgur fyrir öruggum akstri

S

amkvæmt könnun sem Euro NCAP vann telja 70% ökumanna að nú þegar sé hægt að kaupa og aka sjálfakandi bíl. Euro NCAP er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu og árekstursprófar nýja bíla og metur öryggi þeirra á hlutlægan hátt. Könnunin var gerð til að bera saman mat Euro NCAP á þróun sjálfakandi bíla sem samtökin unnu annars vegar að og hins vegar hvað almenningur heldur um þá. Helstu tækninýjungarnar sem Euro NCAP vildi prófa voru hraðaaðlögun, stýrisaðstoð sem sér til þess að bíllinn er alltaf á miðjum veginum og hemlunaraðstoð sem nær til þess að bíllinn sé alltaf í öruggri hemlunarfjarlægð frá næsta bíl. Á meðal þeirra bíla sem voru prófaðir voru Audi A6, BMW 5, Ford Focus, Mercedes Benz C Class, Nissan Leaf, Tesla Model S, Toyota Corolla og Volvo V60.

Helstu niðurstöður í könnunni eru þær að enginn bíll á markaðnum býður upp á fulla sjálfvirkni. Bílarnir veita ökumanni ákveðna aðstoð og má ekki rugla henni saman við sjálfvirkan akstur. Ökumaðurinn er fullkomlega ábyrgur fyrir öruggum akstri. Sé þessi tækni notuð rétt getur hún hjálpað örkumanni að viðhalda öruggri fjarlægð, hraða og vera innan akreinar. Þessa tækni ætti ekki að nota í aðstæðum sem þau eru hvorki hannaðar til að vera og ekki heldur til að treysta á sem öruggan valkost fyrir akstur.

Sjálfakandi bílar eru því hvergi nærri tilbúnir og er trú almennings alfarið á skjön við raunveruleikan, stöðu og getu þessara bíla í dag. Þetta undirstrikar þann misskilning bílakaupenda þegar kemur að raunveruleika sjálfsakandi bíla og hve þessi þróun er skammt á veg komin.

21


Andstaða gegn veggjöldum í Noregi Þ

Andstæðingar stofnuðu stjórnmálaflokk Töluverð andstaða er við innheimtu veggjalda í Noregi en fyrir fjórum árum voru stofnuð þar samtök, Folkeaksjonen nei til mer bompenger, til að berjast gegn þeim. Reyndar buðu samtökin fram sem flokkur í Stavanger 2015 og fékk hann þrjá kjörna fulltrúa. Markmið og tilgangur samtakanna er að afnema veggjöld sem fjármögnunarleið. Það eigi að vera á ábyrgð ríkisins að standa undir fjármögnum þeirra því að uppbygging innviða sé samfélagslegt verkefni.

að er ekki einungis hér á landi að mikil umræða fer fram gegn veggjöldum heldur eru Norðmenn í sömu málum. Segja má að frændur vorir séu komnir lengra á veg í þeim efnum því að nú bendir flest til þess að samtök sem berjast gegn veggöldum í Noregi bjóði fram víða um land í sveitarstjórnarkosningum sem fara þar fram á næsta ári. Í Noregi hafa veggjöld verið um langa hríð og er áætlað að þau verði um 200 milljarðar á yfirstandandi ári. Megintilgangur þeirra er að hraða vegaframkvæmdum.

Tækni þróuð gegn bílveiki B

ílar Jaguar Land Rover munu í nánustu framtíð geta fylgst með og brugðist við séu farþegar í bílunum við það að verða bílveikir. Um 70% fólks finnur fyrir ógleði af völdum ferðaveiki, hvort sem er í bíl, lest, skipi eða jafnvel tívolítækjum, og eru börn stærsti áhættuhópurinn. Spencer Salter, heilsufræðingur hjá Jaguar Land Rover, segir að í raun viti menn fremur lítið um ástæður ferðaveiki og hvernig sé árangursríkast að bregðast við henni. Almennt er þó talið að ástæða veikinnar sé sú að heilanum berist misvísandi boð frá hinum ýmsu skynfærum líkamans. Hjá Jaguar Land Rover hefur að undanförnu verið unnið að verkefnum til að komast nær ástæðum veikinnar til að þróa sem árangursríkastar aðferðir til að koma í veg fyrir hana. Reiknilíkön í algrím eru meðal aðferða sem fyrirtækið beitir til að greina líðan farþega og er algrímið yfirfært á stjórntölvu bíla sem aðlagar þá aksturinn og ýmsar stillingar í 22

farþegarýminu til að draga úr líkum á vanlíðan. Hægt að minnka um 60% Á undanförnum mánuðum hafa tæknisérfræðingar fyrirtækisins unnið að tilraunum sem spanna um 25 þúsund kílómetra akstur og benda niðurstöðurnar til að sú tækni sem fyrirtækið vinnur að gæti fækkað tilfellum bílveiki um 60%. Meðal tilrauna sem gerðar voru var að fylgjast með líðan farþega sem voru að lesa og skrifa tölvupóst á bílferðalagi. Líklegt er að tölvuvinna muni vaxa samfara aukinni sjálfvirkni bíla og er því mikilvægt að þróa árangursríkar aðferðir sem dragi úr líkum á bílveiki. Bílar Jaguar Land Rover eru nú þegar búnir margs konar tækni til að draga úr líkum á bílveiki. Til dæmis geta farþegar Jaguar E-Pace valið um 26 mismunandi stillingar sem hafa áhrif á sætin. Sumar hafa þann tilgang t.d. að stilla sætisstöðuna í

einna hagkvæmastri augnhæð við snertiskjá bílsins á meðan aðrar stjórna hita og kælingu sætanna. Reynslan sýnir að hvort tveggja hefur áhrif á bílveiki.


Neytendur fái skýrari og áreiðanlegri upplýsingar Á

fundi sem Green NCAP FIA (Alþjóða -samtök bifreiðaeigenda) og FIA Region 1 efndu til í Brussel fyrir skemmstu voru tilkynntar niðurstöður þar sem bifreiðaeigendur geta séð hvernig þeirra bíll stendur þegar kemur að losun koltvísýrings, C02, og öðru sem snýr að umhverfismálum almennt. Þær upplýsingar hafa aldrei áður legið fyrir á eins skýran hátt að undangengnum prófunum sem hér um ræðir. Áðurnefnd samtök hafa lagt mikla vinnu í þetta verkefni en hagsmunamál þeirra er að bílar mengi sem minnst. Hyundai Ioniq og BMW i3 fengu hæstu einkunn í prófununum, alls fimm stjörnur.

Andrew McKellar framkvæmdarstjóri FIA

Áhrifamenn innan Evrópusambandsins voru viðstaddir þegar niðurstöður prófananna voru kynntar og lýstu yfir ánægju með þetta skref sem hefur þann eina tilgang að stuðla að hreinna umhverfi. Þessi sjálfstæða áætlun sem kynnt var á enn fremur að upplýsa neytendur og hagsmunaaðila í greininni um mikilvægi þess sem lítur að umhverfisáhrifum nýrra bíla á markaðnum.

prófun tóku þátt tólf tegundir bifreiða sem gengust undir strangt mat og var tilgangurinn að skora á bílaframleiðendur að framleiða umhverfisvænni bíla en gert hefur verið fram að þessu. FIA ákvað að styðja Euro NCAP við þróun nýrra umhverfisbættra ökutækja en sá aðili hefur yfir 20 ára reynslu af því að veita neytendum og hagsmunaaðilum alhliða upplýsingar og koma fræðslu um bætt öryggi á framfæri. Þetta var gert mögulegt í samvinnu með FIA Sustainable Mobility Programme sem fékk fjármögnun frá FIA Foundation í verkefnið. „FIA og 145 aðildarfélög þess um allan heim eru sannfærð um að hlutverk neytenda leiki stórt hlutverk í umskiptum í átt að sjálfbærum lausnum. Við getum veitt framleiðendum visst aðhald og unnið að sanngjarni stefnu með það markmið að koma á framfæri til neytenda skýrum og áreiðanlegum upplýsingum um umhverfisáhrif nýrra bíla,“ sagði Andrew McKellar framkvæmdastjóri FIA í bílaumferð og ferðaþjónustu þegar niðurstöður úr prófununum voru kunngerðar.

Niðurstöðurnar úr fyrstu Green NCAP prófana Hyndai Ioniq BMW i3 VW Up! GTI BMW X1 2.0d Mercedes-Benz A200 Ford Fiesta 1.0 EcoBoost Audi A7 50 TDI Volvo XC40 T5 Subaru Outback 2.5 Engin stjarna VW Golf 1.6 TDI Fiat Panda 1.0

Helstu markmið Green NCAP í þessu verkefni voru að vinna hlutlaust mat og að gagnsæi yrði sett á oddinn. Með því verður hægt að ná fram markmiðunum sem hvetja alla aðila til hreinnar og orkusparandi tækni. Í þessari nýjustu 23


Hringvegurinn liggur nú um

Vaðlaheiðargöng H

ringvegurinn liggur nú um Vaðlaheiðargöng eftir að þau voru formlega opnuð fyrir umferð 12. janúar 2019. Með opnun ganganna styttist hringvegurinn um 16 km og að sama skapi leiðin milli Akureyrar og Húsavíkur. Göngin eru alls 7478 metrar, þar af 272 metrar í vegskálum. Hæð vegar við gangamunna í Fnjóskadal er 161 m yfir sjávarmáli. Áfram verður hægt að fara veginn um Víkurskarð eftir Grenivíkurvegi (83) og Víkurskarðsvegi (84). Víkurskarð er 325 m yfir sjávarmáli og því fjallvegur miðað við hæð og brekkur með 9% halla þegar mest er. Aðalmarkmiðið með Vaðlaheiðargöngum var að losna

24

við að fara yfir Víkurskarð, styttingin kemur síðan að auki. Frá 2. janúar var tekin upp gjaldtaka í göngunum. Gjaldtakan er sjálfvirk þannig að tekin er mynd af númerum bíla inni í göngunum og stærð bíla er metin. Hafi bíll verið skráður á veggjaldavefinn ásamt kreditkortanúmeri greiðanda er veggjald dregið beint af viðkomandi greiðslukorti. Sé bíll óskráður er sendur reikningur á skráðan eiganda ökutækisins og bætist innheimtukostnaður þá við veggjaldið. Ökumönnum er bent á að nýta sér vefinn veggjald.is þar sem hægt er að kaupa afsláttarmiða fyrirfram.

Upphaflega stóð til að opna Vaðlaheiðargöng á síðari hluta árs 2016. Ýmsar tafir á framkvæmdatímanum urðu þess valdandi að ekki var hægt að opna göngin fyrr en nú. Erfiðleikar við framkvæmdir, meðal annars vegna jarðhita og vatnselgs, töfðu framvinduna. Gerð ganganna hefur jafnframt sætt mikilli gangrýni sökum þess hve langt hún fram úr upphaflegri kostnaðaráætlun. Í upphafi gerðu áætlanir ráð fyrir því að heildarkostnaður við gangagerðina myndi nema átta milljörðum króna. Þegar upp verður staðið nemur hann ekki undir 20 milljörðum króna.


FIA og ólympíuhreyfingin í samstarf

A

lþjóðasamtök bifreiðaeigenda, FIA, og Alþjóða ólympíuhreyfingin, IOC, hafa undirritað samstarfssamning sem snýr að því að hægt verði að nálgast myndrænt efni frá FIA, svo sem um mótorsport og vegaöryggi. Viðkomandi sjónvarpstöð verður aðgengileg á heimasíðu IOC í gegnum snjallforrit og á sjónvarpsstöð FIA. Samningurinn er talinn geta ýtt undir meira áhorf og fleiri styrktaraðila sé litið til framtíðar. Þeir Jean Todt, forseti FIA, og Thomas Bach, forseti IOC, skrifuðu undir samninginn í höfuðstöðvum IOC í

að auka áhrif mótoríþrótta og ná til nýrra markhópa víða um heim,“ mælti Bach. Nú velta einhverjir fyrir sér spurningunni um hvort þetta sé upphafið að því að mótorsport af einhverju tagi verði orðin keppnisgrein á ólympíuleikum í framtíðinni. Tíminn einn mun leiða það ljós. FIA eru heimssamtök bifreiðaeigendafélaga og bifreiðaíþróttafélaga. Flestöll systurfélög FÍB eru sameinuð innan 1. svæðissambands FIA og FÍB er þeirra á meðal. Höfuðstöðvar 1.

Hámarkshraði á þýskum hraðbrautum veldur titringi Töluverðar umræður hafa verið um nokkra hríð í Þýskalandi um hámarkshraða á hinum margfrægu þýsku hraðbrautum. Engin hámarkshraði hefur verið fram að þessu á brautunum en markmiðið með lækkum hraða er m.a. að draga úr kolefnismengun. Nefnd, sem þýsk stjórnvöld settu á laggirnar til að koma með tillögur í þessum efnum, leggur til að tekinn verði upp hámarkshraði við misjafna hrifningu meðal þýsks almennings. Bíllinn hefur alla tíð verið í hávegum í Þýskalandi og finnst mörgum að þeim vegið með að fá ekki að ráða hraða sínum á hraðbrautunum eins og venjan hefur verið. Ein af tillögum nefndarinnar mælir um að setja 130 km hámarkshraða á brautunum. Frjálsræði hvað hámarkshraða áhrærir hefur ríkt alla tíð í Þýskalandi en það er eina Evrópulandið þar sem ökumenn mega, víðast hvar, aka eins hratt og þeir vilja. Þessu máli er langt frá því lokið enda sýnist sitt hverjum í þessu efnum. Meira að segja hefur samgöngumálaráðherra Þýskalands stigið fram og lýst yfir andstöðu sinni við þessar tillögur. Hann vill engan hámarkshraða og er þar í hópi meirihluta almennings hvað þetta snertir. Umhverfissinnar eru hins vegar á öðru máli og vilja lækka hraða.

Lausanne í Sviss á dögunum. FIA lýsir yfir ánægju með þetta samstarf sem gerir samtökin öflugri í íþróttasamfélaginu, skapar ný tækifæri og nær um leið til aðdáenda mótoríþrótta. Tækifæri til að vinna betur saman „Þetta er einnig tækifæri fyrir okkur til að vinna betur saman á sviði vegaöryggis á allan hátt og miðla upplýsingum til almennings,“ sagði Todt frá.. „Við erum mjög spennt fyrir þessu aukna samstarfi við FIA á vettvangi ólympíuvettvangsins. Þetta gefur svigrúm til betri kynningar og við hlökkum til samstarfsins. Markmiðið er enn fremur

svæðissambands FIA eru í Brussel í Belgíu. Innan 1. svæðissambandsins eru 111 bifreiðaeigenda- og ferðafélög með um 38 milljón félagsmenn. Sambandssvæðið nær yfir alla Evrópu, Miðausturlönd og Afríku. FIA er málsvari félagsmanna og þátttakenda í hvers konar bílaumferð, hvort heldur þeir eru akandi, hjólandi, gangandi eða farþegar í almenningssamgöngum. Meginmarkmið FIA er að tryggja að allar samgöngur séu sem öruggastar, skilvirkar, sjálfbærar og á hóflegu verði. Þess vegna vinnur 1. svæðissamband FIA og aðildarfélög þess að umferðaröryggismálum, neytendavernd og sjálfbærum samgöngum.

Umrædd samgöngunefnd hefur fleiri mál til umfjöllunar en hámarkshraða. Svo getur farið að settar verði auknar álögur á díselbíla og rafmagns- og tengiltvinnbíla. Áætlað er að nefndin ljúki störfum á vormánuðum og munu þá tillögurnar liggja endanlega fyrir.

25


Sólarrafhlöður til að auka eldsneytis- og orkunýtingu

T

ækni fleytir fram á ýmsum sviðum og þar er bílagreinin ekki undanskilin. Hyundai Motor Group hefur komið fram með ýmsar nýjungar og nú hefur fyrirtækið kynnt áætlun um að búa þök og jafnvel vélarhlífar tiltekinna bílgerða fyrirtækisins með sólarrafhlöðum til að auka eldsneytis- og orkunýtingu og draga úr útblæstri. Von er á fyrstu bílunum með tækninni í lok þessa árs eða ársbyrjun 2020. Sólarrafhlöður hlaði rafmagni á rafhlöður bíla Tæknin gerir ráð fyrir að sólarrafhlöður hlaði rafmagni á rafhlöðu bíla, hvort sem þeir eru með sprengihreyfil eða á tvinn-, tengiltvinn- eða rafbíla. Í fyrsta áfanga innleiðingar verða notaðar kísilsólarsellur, í öðrum fasa hálfgegnsæjar sólarsellur og í þriðja og síðasta áfanga í þróun tækninnar verður jafnvel hægt að láta léttan sólarselluhjúp þekja nær alla yfirbyggingu bílsins. Í fyrstu kynslóð sellanna verður þak tvinnbíla fyrirtækisins búið sólarsellu sem á að geta hlaðið 30% - 60% daglegrar raforku inn á rafhlöðu bílsins, allt eftir því hvert birtustigið er hverju sinni. Önnur kynslóð sellanna, hálfgegnsæjar sólarsellur, verða í fyrsta sinn í sögunni settar á bíla með bensín- eða díselvél til að létta undir með orkuframleiðslu vélar og minnka eyðslu og útblástur.

150 þúsund rafbílar í Noregi

S

ala á rafbílum gengur hvergi betur en í Noregi og slagar fjöldi þeirra nú hátt í 150 þúsund talsins. Fyrsti Nissan Leaf kom á götuna í Noregi 2011 og hefur síðan notið mikilla vinsælda. Undir lok síðasta árs náði Nissan þar merkum áfanga en nú hafa fimmtíu þúsund Nissan Leaf verið seldir þar í landi, þar af yfir 15 þúsund á síðasta ári. Langflestir Nissan Leaf bílar seldust í mars, hátt á þriðja þúsund.

Þriðja kynslóð sellanna er einkum ætluð rafknúnum bílum, hvort sem er tvinn-, tengiltvinn- eða rafbílum enda þótt tæknilega verði ekkert því til fyrirstöðu að nota þær einnig á bensín- og díselbíla.

Allt fyrir bílinn í vefverslun FÍB.is Loftdæla + kvoða FÍB verð: 5.288.Fullt verð: 6.610.-

Sjúkrataska FÍB verð: 2.100.Fullt verð: 3.500.-

Snjóskófla FÍB verð: 4.360.Fullt verð: 5.450.-

26

Öryggisljós FÍB verð: 3.084.Fullt verð: 3.855.-

Langir biðlistar eftir bílum Sala á rafbílum er best á Oslóarsvæðinu en bílar fara í vaxandi mæli út á landsbyggðina en áður. Ekkert lát er á sölu rafbíla í Noregi og bendir margt til þess að salan verði enn meiri á þessu ári. Biðlistar eru eftir rafbílum og eru dæmi um að kaupendur þurfi að bíða í nokkra mánuði eftir nýjum bíl. Norðmenn eru í algjöru forystuhlutverki þegar kemur að rafbílum í Evrópu og víðar í heiminum og er Nissan Leaf vinsælastur. Þess má geta að skráðir raf- og tengiltvinnbílar á Íslandi eru á níunda þúsund talsins. Fyrstu hlöður Orku náttúrunnar (ON) voru teknar í notkun í apríl 2014 en þá voru aðeins 94 rafbílar og 3 tengiltvinnbílar skráðir á Íslandi.


Ný þvottastöð dregur úr svifryksmengun í borginni

R

yk og óhreinindi á götum borgarinnar gera vart við sig öðru hvoru með tilheyrandi mengun á höfuðborgarsvæðinu. Þetta ástand hefur verið vegfarendum mikill vansi og þá sérstaklega astma- og lungnasjúklingum sem í mörgum tilfellum hafa þurft að halda sig innan dyra þegar versta ástandið gengur yfir. Forsvarsmenn um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut, NLSH og Íslenskir Aðalverktakar hf. leggja áherslu á vandaðar umhverfisvarnir í kringum byggingarsvæði nýja Landspítalans við Hringbraut.

Til að koma í veg fyrir að óhreinindi berist út á götur borgarinnar frá jarðvegsframkvæmdum á Landspítalalóðinni hefur verið sett upp öflug hjóla og undirvagna þvottastöð fyrsta sinnar tegundar hérlendis fyrir vörubíla og vinnuvélar. Með notkun á þessari nýju tegund þvottastöðvar er verið að marka tímamót í jarðvinnugeiranum hér á landi en ekki hefur verið sambærileg þvottastöð tekin í notkun um langt skeið. Moby Dick þvottastöðin er svissnesk hágæða hjóla- og undirvagnaþvottastöð sem er framleidd af fyrirtækinu Frutiger

sem er með yfir 30 ára reynslu í mengunarvörnum á jarðvinnu- og byggingasvæðum. Stöðin er sjálfvirk þar sem vörubílar og vinnuvélar keyra framhjá skynjara sem ræsir vatnskerfið í 30 sekúndur. Fjöldi vatnsspísa þrífa ryk og drullu af undirvagni og hjólum sem síðan skolast niður í 60.000 lítra vatnstank. Þar setjast jarðefni á botninum og er þeim síðar dælt úr tanknum. Þvottastöðin er liður NLSH ohf. og ÍAV í að leggja lóð sín á vogarskálarnar að stuðla að betri heilsu landsmanna en svifryksmengun hefur, samkvæmt Umhverfisstofnun, farið yfir heilsuverndarmörk sjö til tuttugu sinnum á ári undanfarin ár. Ryk og óhreinindi á götum borgarinnar hafa árum saman verið íbúum höfuðborgarsvæðisins til ama. Þvottastöðin mun skila hreinni götum og minna svifryki fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins Orðið hefur jákvæð umhverfisvitund fyrirtækja í jarðvinnugeiranum undanfarin ár sem í grunninn snýr að bættri umgengi við landið okkar og heilsu samborgara.

Léttskoðun er góður valmöguleiki

A

ðalskoðun býður bifreiðaeigendum upp á léttskoðun fyrir þá sem eru að kaupa sér bíl og vilja ganga úr skugga um að hann sé í góðu standi áður en gengið er frá kaupum. Einnig er hægt að nýta skoðunina til að láta yfirfara bílinn, óháð því hvort verið sé að kaupa eða selja. Skoðunin tekur skamman tíma og er farið yfir stýrisbúnað, hjólabúnað, aflrás og hemlabúnað. Um er að ræða fljótlega og ódýra leið sem byggir á faglegu mati skoðunarmanns. Léttskoðun gildir eingöngu fyrir bíla tíu ára og yngri og undir sex tonnum að heildarþyngd. Engar tímapantanir þarf, aðeins þarf að mæta á staðinn og er bíllinn skoðaður. Léttskoðunin kostar 5.850 krónur en tekið er fram að Aðalskoðun ber ekki ábyrgð á bilunum sem koma fram síðar. Vildum viðbót inn á markaðinn Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, segir að fyrirtækið hafi farið af stað með léttskoðun haustið 2018 af

þeirri einföldu ástæðu að þeir vildu koma með viðbót inn á þennan markað. Mikill kostnaður er því samfara að fara í fulla ástandsskoðun og í sumum tilfellum er hennar ekki þörf. „Í léttskoðun tökum við út þætti sem fólki er ómögulegt að sjá og hefur jafnan ekki þekkingu til eins og undirvagn, dempara og hemla. Þetta var það millibili sem við vildum fara en ef fólk telur sig þurfa meira á það að sjálfsögðu að fara í fulla ástandsskoðun. Léttskoðun er valmöguleiki fyrir nýrri bíla en auðvitað vill fólk fá skoðun á helstu og dýrustu þáttum sem geta bilað í bílum eins t.d. því sem lítur að undirvagninum. Við höfum fengið mjög sterk viðbrögð við léttskoðuninni og stækkar viðskiptahópurinn stöðugt. Það þarf ekki að

panta sérstaklega en þetta er tekið meðfram almennri skoðun og gengur fljótt og vel fyrir sig. Við tökum enn fremur út bíla sem fólk er að fara með á sölu en þar hefur kaupandinn þá vottorð um stöðu bílsins. Það var þörf fyrir léttskoðun á markaðnum en við sjálfir erum ekki í þessum stóru ástandsskoðunum og þess vegna ákváðum við að fara þessa leið sem er í raun þægileg fyrir fólk. Léttskoðunin er líka helmingi ódýrari og það er jú líka sem skiptir máli,“ sagði Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, í spjalli við FÍB-blaðið.

27


Porsche Roadshow 2018

Öryggi barnsins í bílnum

Niðurstöður prófana á fjölda barnabílstóla frá féla ásamt ýmsum fróðleik til að tryggja öryggi barnsi 28


élagi bifreiðaeigenda í Þýskalandi ADAC nsins. 29


Hvar skal barnið sitja? Börn skulu vera vel spennt Barnið hefur félagsskap Muna að slökkva á loftpúða Fætur eiga ekki að snerta mælaborð Barn gæti dregið úr athygli ökumanns við akstur ISOfix festingar mögulega ekki til staðar

Nær engar takmarkanir við notkun ISOfix festingar líklega til staðar Farið úr bíl beint á gangstétt Getur tekið pláss af framsæti Takmarkað augnsamband

Barnið er framvísandi og sér út Getur tekið pláss af báðum framsætum Oftast lítið pláss fyrir barnabílstól Barnabílstóll er fyrir framan armpúða eða á ójöfnu ISOfix mögulega ekki til staðar

• Flokkur 0 ungbarnastóll eða burðarstóll sem festist í vöggu í bílnum. Hann er bakvísandi með innbyggðum beltum. Mælt með notkun upp að 10 kg eða 15 mánaða aldri. • Flokkur 0+ bakvísandi stóll sem er fastur í bílnum og er barnið spennt í stólinn á staðnum. Notkun frá 2-3 kg upp að 13 kg eða 15 mánaða aldri.

• Flokkur 2 framvísandi stóll fyrir börn frá 15-25 kg eða 4-6 ára. Í sumum tilfellum er hægt að nota þessa stóla einnig sem bakvísandi.

30

Nær engar takmarkanir við notkun ISOfix festingar líklega til staðar Getur tekið pláss af framsæti Takmarkað augnsamband Hætta getur skapast þegar barn fer úr bíl við götu

• Flokkur 1 bak- eða framvísandi stóll, miðað við 9-18 kg eða til 4 ára aldurs.

Hvað er ISO-fix festing?

• Flokkur 3 seta með baki sem lyftir barninu upp og gerir því kleift að nota öryggisbelti bílsins. Mælt með notkun fyrir 22-36 kg eða 4-10 ára.

Með innkomu ISO-fix festinga á markað var hægt að draga umtalsvert úr líkum á rangri ísetningu barnabílstóla og auðvelda ísetninguna.

ISO-fix eru staðlaðar festingar í bílum og á barnabílstólum. Sé bíll útbúinn með ISO-fix eru festingarnar staðsettar milli sætisbaks og setu. Þar geta festingar barnabílstóls tengst örugglega við án mikillar fyrirhafnar. Þá eru akkerisfestingar (e. anchorpoints) aftan á sætisbaki eða í gólfinu þar fyrir. Þessi festing er notuð til að festa efri hluta stólsins til að tryggja stöðugleika. Gott er að athuga hvort akkerisfesting sé til staðar þar sem þær komu ekki í eldri bílum þrátt fyrir að hafa verið útbúnir ISO-fix. Sumir framleiðendur hafa boðið stóla með stuðningsstöng sem gengur niður í gólf bílsins og gerir fyrrnefndar akkerisfestingar óþarfar.


Aftur á bak eða áfram? Bakvísandi barnabílstólar eru almennt öruggari en framvísandi og á það sérstaklega við ef bíll lendir í framan á keyrslu. Bakvísandi stóll getur dregið margfalt úr hættum á skaða á höfuð, hálsi og hrygg. Hvatt er til að nota bakvísandi stól eins lengi og kostur er eða upp að 3-4 ára aldri. Þegar barn hefur notkun á framvísandi stóli skal notast við innbyggð öryggisbelti eins lengi og kostur er, þar sem minni hætta er á að barnið kastist þá til við árekstur. Samkvæmt leiðbeiningum Samgöngustofu er barni ekki skylt að nota sérstakan öryggisbúnað annan en bílbelti hafi það náð 135 cm hæð. Hins vegar er ráðlagt að notast við öryggisbúnað eins og bílpúða með baki sé hann til staðar og henti barninu. Það verður aldrei of oft kveðið að barnabílstóll bak- eða framvísandi skal aldrei nota í framsæti með virkum loftpúða þar sem hann getur valdið mun meiri skaða en komið að gagni. Þá skal einstaklingur sem er lægri en 150 cm ekki sitja í framsæti með virkum loftpúða.

Gæði - Öryggi - Þjónusta

LANDSINS MESTA ÚRVAL AF BARNABÍLSTÓLUM Maxi-Cosi Pebble Plus

Maxi-Cosi PearlPro i-Size

Britax Dualfix M i-Size

31

Faxafeni 8 | 108 Reykjavík | fifa.is


Líftími barnabílstóla Flest allir barnabílstólar hafa ákveðin líftíma sem framleiðandi stólsins áætlar. Þetta getur verið á bilinu 6-10 ár frá framleiðsludegi. Upplýsingar um framleiðsludag eru breytilegar eftir framleiðendum en hann má meðal annars finna á límmiða á sætinu, í bæklingi sem fylgir stólnum eða á framleiðslustimpli sem er stimplaður í plast eða kork á sætinu sjálfu. Lesið í framleiðslustimpil Framleiðsluár og -mánuð stóls má sjá á framleiðslustimpli sem yfirleitt má finna undir sætisáklæði stólsins. Stimplinum má líkja við klukku þar sem númerið í miðjunni táknar framleiðsluár og síðan vísar ör á framleiðslumánuð. Hvað hefur áhrif? Bætt tækni og breyttir staðlar: Barnabílstólar eru sífellt að verða öruggari og öryggikröfur að aukast. Þrátt fyrir að barnabílstóll sé „bara“ orðinn nokkurra ára gamall og líti vel út getur hann mögulega verið úreldur hvað varðar nútíma gæðastaðla. Slit: Barnabílstólar eru ekki gerðir til að endast að eilífu, efni missa eiginleika sinn með aldrinum og getur þannig dregið úr sveigjanleika og stóllinn brotnað undan álagi. Þá eru hreyfanlegir hlutir eins og belti einnig viðkvæmir fyrir endurteknum ágangi og geta misst styrk og eiginleika með aldrinum. Öryggisprófanir: Eins og áður segir er stöðug þróun í gangi til að tryggja hámarksöryggi. Öryggisprófanir sem voru framkvæmdar á stólum fyrr fimm eða tíu árum geta verið úr sér gengnar og gefið ranga mynd af því öryggi sem þær bjóða í raun upp á í samanburði við nýrria stóla. Stuðningur framleiðanda: Sé stóll kominn fram yfir fyrningartíma framleiðanda má búast við því að framleiðandinn hafi hætt öllum stuðningi við stólinn eins og að afla varahluta eða aukabúnaðar. Eigendasaga: Hafi barnabílstóll lent í umferðaróhappi eða orðið fyrir hnjaski skal taka hann strax úr umferð. Þrátt fyrir að ekkert sjáist á ytra byrði getur stóllinn hafa misst styrk og eiginleika til að vernda barnið eins og ætlast er til. Ath. að samkvæmt framleiðendum hefst fyrningartími strax og stóllinn er framleiddur en ekki þegar hann er tekin í notkun. Því er góð regla að kynna sér framleiðsludag stólsins, sérstaklega ef hann er hugsaður til nokkurra ára í notkunar.

32

Gæðaprófanir ADAC á barnabílsstólum Góður barnabílstóll er einn af mikilvægustu þáttunum þegar kemur að því að hámarka öryggi barna í bíl. En hvers konar stól skal velja? Urmull barnabílstóla er í boði frá ýmsum framleiðendum sem bjóða mikinn fjölda af gerðum, útfærslum, litum o.s.frv. Til þess að aðstoða fólk við val á hinum fullkomna barnabílstól hefur þýski bílaklúbburinn ADAC borið saman fjölda barnabílstóla á hverju ári. Stólarnir voru dæmdir út frá fjórum megin þáttum Öryggi: Vandaðir barnabílstólar uppfylla þær öryggiskröfur sem stjórnvöld setja og vernda barnið fyrir þeim skaða sem bílslys geta valdið. Þannig skal stóllinn lágmarka meiðsl barns óháð ákomu. Umgengni: Vandaður barnabílstóll skal vera notendavænn og auðveldur í uppsetningu. Þá er skoðað hvernig sé að halda stólnum hreinum. Hagkvæmni: Góður barnabílstóll skal vera þægilegur og bjóða upp á gott rými fyrir barnið. Skaðleg efni: Við efnisval í barnabílstóla skal fara eftir sömu kröfum og gerðar eru til barnaleikfanga og fatnaðar. Alls prófaði ADAC 41 barnabílstól árið 2018. Samkvæmt athugun FÍB eru 13 tegundir á þessum lista seldir hér á landi og verður farið nánar yfir niðurstöður þeirra. BIrt verð eru án allra afslátta.


MAXI-COSI ROCK Lýsing: Bakvísandi i-size stóll. Festist með þriggjapunkta bílbelti. Fyrir börn frá 45-75 sm eða upp að12 mánaða aldri.

Þyngd: 3,8 kg

Öryggi Mjög lítil hætta á meiðslum við framanákeyrslu. Mjög lítil hætta á meiðslum í hliðarárekstri. Góða staða belta Stöðugur í bíl

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efnal

Notkun Lítil hætta á rangri notkun Einfalt að festa barn Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Léttur

Söluaðilar: Fífa Verð: 33.990 krónur

Hagkvæmni Góður fótastuðningur Gott áklæði Góð áseta Tekur lítið pláss Rúmgóður Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Mjög vönduð smíði

Samtals einkunn

BRITAZ RÖMER BABY-SAFE 2 I-SIZE Lýsing: Bakvísandi i-size stóll. Festist með Þyngd: 4,8 kg þriggjapunkta bílbelti. Fyrir börn frá 40-83 sm Söluaðilar: Fífa / AB Varahlutir eða upp að 18 mánaða aldri hámark 13 kg. Verð: 34.990.- / 34.990.Öryggi Mjög lítil hætta á meiðslum við framanákeyrslu. Lítil hætta á meiðslum í hliðarárekstri. Góða staða belta Óstöðugt í bíl

Samtals einkunn

Notkun Lítil hætta á rangri notkun Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Einfalt sæti Getur verið flókið að festa barn

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna Hagkvæmni Góður fótastuðningur Gott áklæði Gott útsýni fyrir barn úr stól Góð áseta Tekur lítið pláss Mjög rúmgóður Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Vönduð smíði

MAXI-COSI CABRIOFIX Lýsing: Bakvísandi i-size stóll. Festist með þriggjapunkta bílbelti. Fyrir börn upp að18 mánaða aldri eða 13 kg.

Þyngd: 3,3 kg Söluaðilar: Fífa

Öryggi Mjög lítil hætta á meiðslum við framanákeyrslu. Stöðugur í bíl Miðlungshætta á meiðslum við hliðarárekstur Staða belta mætti vera betri Notkun Einfalt að festa barn Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Léttur Möguleiki á rangri notkun

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna

Verð: 25.990.-

Hagkvæmni Góður fótastuðningur Gott útsýni fyrir barn úr stól Góð áseta Tekur lítið pláss Mjög rúmgóður Þunn bólstrun Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Vönduð smíði Getur reynst erfitt að fjarlægja áklæði

Samtals einkunn 33


CRACO SNUGRIDE I-SIZE + BASE I-SIZE Lýsing: Bakvísandi I-size stóll. Festist í ISOfix vöggu eða með þriggjapunkta bílbelti. Fyrir börn frá 0 til 87 sm eða 45-75 sm eða upp að18 mánaða aldri.

Þyngd: Sæti 5 kg, Vagga 8,4 kg.

Öryggi Lítil hætta á meiðslum við hliðarárekstur Góða staða belta Stöðugur í bíl Miðlungs hætta á meiðslum við framaánkeyrslu

Skaðleg efni Lítið magn skaðlegra efna

Notkun Einfalt að festa barn Einfalt að festa stól í bíl Möguleiki á rangri notkun Leiðbeiningar og viðvaranir mættu vera skýrari Þarf langt bílbelti þegar fest er án vöggu+

Söluaðilar: Ólavía og Oliver

Verð: 54.990.-

Hagkvæmni Góður fótastuðningur Gott áklæði Góð áseta Tekur lítið pláss Rúmgóður Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Vönduð smíð

Samtals einkunn

CYBEX SIRONA S I-SIZE Lýsing: Bakvísandi I-size stóll fyrir börn frá Þyngd: 14,6 kg 45-105 sm eða framvísandi frá 76-105 sm og Söluaðilar: Dóttir & Son / Ninekids lágmarki 15 mánaða upp að fjögurra ára. Verð: 87.900.Öryggi Mjög lítil hætta á meiðslum í hliðarárekstri. Góða staða belta Stöðugur í bíl Miðlungs hætta á meiðslum við framanákeyrslu.

Samtals einkunn

Notkun Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Möguleiki á rangri notkun Getur verið flókið að festa barn Mjög þungur

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna Hagkvæmni Gott áklæði Góð áseta Mjög rúmgóður Skortur á stuðning við fætur Plássfrekur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Mjög vönduð smíð

CHICCO AROUND U I-SIZE Lýsing: Bakvísandi I-size stóll fyrir börn frá 40 - 105 sm eða framvísandi frá 76-105 sm upp að 16,5 kg.

Þyngd: 17,2 kg Söluaðilar: Chicco Verð: 89.990.-

Öryggi Lítil hætta á meiðslum við hliðarárekstur Góð staða belta Stöðugur í bíl Miðlungshætta á meiðslum við framanákeyrslu

Skaðleg efni Lítið magn skaðlegra efnal

Notkun Möguleiki á rangri notkun Getur verið flókið að festa barn Getur verið flókið að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranir mættu vera skýrari Mjög þungur

34

Hagkvæmni Góð bólstrun Góð áseta Tekur lítið pláss Mjög rúmgóður Skortur á stuðning við fætur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Vönduð smíði Getur reynst erfitt að fjarlægja áklæði

Samtals einkunn


CHICCO COSMOS Lýsing: Bakvísandi stóll fyrir börn upp að 13 kg. Þyngd: 7,4 kg og framvísandi fyrir 9-18 kg. eða fjögurra ára Söluaðilar: Chicco Verð: 42.900.aldri. Festist með þriggja punkta bílbelti. Öryggi Aukin hætta á meiðslum við framanákeyrslu Aukin hætta á meiðslum í hliðarárekstri Staða belta mætti vera betri Óstöðugur í bíl Notkun Aukin hætta á rangri notkun Getur verið flókið að festa barn Getur verið flókið að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranir mættu vera skýrari

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efnal Hagkvæmni Góður fótastuðningur Gott áklæði Góð áseta Tekur lítið pláss Rúmgóður Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Mjög vönduð smíð

Samtals einkunn

BRITAX RÖMER SWINGFIX M I-SIZE Lýsing: Bakvísandi I-size stóll fyrir börn 61 - Þyngd: 16,3 kg 105 sm upp að 18 kg eða fjögurra ára aldri. Söluaðilar: Fífa Öryggi Mjög lítil hætta á meiðslum við framanákeyrslu. Lítil hætta á meiðslum í hliðarárekstri. Góða staða belta Stöðugur í bíl

Samtals einkunn

Notkun Lítil hætta á rangri notkun Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Getur verið flókið að festa barn Mjög þungur

Verð: 88.990.-

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna Hagkvæmni Gott áklæði Góð áseta Mjög rúmgóður Skortur á stuðningi við fætur Plássfrekur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Mjög vönduð smíð

BRITAX RÖMER DUALFIX M I-SIZE Lýsing: Bakvísandi I-size stóll fyrir börn frá 61-105 sm eða framvísandi frá 76-105 sm og lágmarki 15 mánaða upp að 18 kg.

Þyngd: 16,3 kg Söluaðilar: Fífa / AB Varahlutir Verð: 88.990.- / 84.990.-

Öryggi Lítil hætta á meiðslum við framanákeyrslu. Lítil hætta á meiðslum við hliðarárekstur Góð staða belta Stöðugur í bíl

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna

Notkun Lítil hætta á rangri notkun Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Getur verið flókið að festa barn Mjög þungur

Hagkvæmni Mjög góð bólstrun Góð áseta Mjög rúmgóður Skortur á stuðningi við fætur Plássfrekur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Mjög vönduð smíði

Samtals einkunn 35


MAXI-COSI AXISSFIX AIR Lýsing: Bakvísandi i-size stóll fyrir börn frá 61 til 87 sm og framvísandi frá 76-105 sm eða frá 15 mánaða upp að fjögurra ára aldri.

Þyngd: 12,5 kg.

Öryggi Lítil hætta á meiðslum við framanákeyrslu Góða staða belta Stöðugur í bíl Miðlungs hætta á meiðslum í hliðarárekstri

Skaðleg efni Lítið magn skaðlegra efna

Notkun Lítil hætta á rangri notkun Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranir auðlæsilegar Getur verið flókið að festa barn Mjög þungur

Söluaðilar: Fífa

Verð: 99.990.-

Hagkvæmni Gott áklæði Góð áseta Tekur lítið pláss Rúmgóður Óþægilegur fótastuðningur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Vönduð smíð

Samtals einkunn

CYBEX PALLAS S-FIX Lýsing: Framvísandi sæti fyrir börn frá Þyngd: 14,6 kg 9 - 36 kg eða eins til tólf ára. Notist með Söluaðilar: Dóttir & Son Verð: 56.490.yfirliggjandi öryggispúða frá 9-18 kg. Notist með þriggjapunkta bílbelti. Öryggi Mjög lítil hætta á meiðslum í hliðarárekstri Góða staða belta Stöðugur í bíl Miðlungs hætta á meiðslum við framanákeyrslu

Samtals einkunn

Notkun Einfalt að festa barn Einfalt að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranari auðlæsilegar Möguleiki á rangri notkun Mjög þungur

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna Hagkvæmni Góður stuðningur við fætur Gott áklæði Gott útsýni fyrir barn Góð áseta Tekur lítið pláss Mjög rúmgóður Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Getur reynst erftitt að fjarlægja áklæði Frágangur mætti vera betri

CYBEX SOLUTION S-FIX Lýsing: Framvísandi sæti fyrir börn frá 15 - 36 kg eða frá 4-12 ára aldurs. Notist með þriggjapunkta belti.

Þyngd: 6,3 kg Söluaðilar: Dóttir & Son Verð: 49.900.-

Öryggi Lítil hætta á meiðslum við hliðarárekstur Góð staða belta Stöðugur í bíl Miðlungshætta á meiðslum við framanákeyrslu

Skaðleg efni Lítið magn skaðlegra efnal

Notkun Möguleiki á rangri notkun Getur verið flókið að festa barn Getur verið flókið að festa stól í bíl Leiðbeiningar og viðvaranir mættu vera skýrari Mjög þungur

36

Hagkvæmni Góð bólstrun Góð áseta Tekur lítið pláss Mjög rúmgóður Skortur á stuðning við fætur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Vönduð smíði Getur reynst erfitt að fjarlægja áklæði

Samtals einkunn


RECARO MONZA NOVA EVO SEATFIX Lýsing: Framvísandi stóll fyrir börn frá 15 til 36 kg eða frá 4-12 ára aldurs. Notist með þriggjapunkta bílbelti.

Þyngd: 5,7 kg.

Öryggi Lítil hætta á meiðslum í hliðarárekstri Góða staða belta Stöðugur í bíl Miðlungs hætta á meiðslum við framanákeyrslu

Skaðleg efni Mjög lítið magn skaðlegra efna

Notkun Mjög lítil hætta á rangri notkun Einfalt að festa barn Einfalt að festa stól í bíl Léttur Leiðbeiningar og viðvaranir mættu vera skýrari

Söluaðilar: Bílasmiðurinn Verð: 35.000.-

Hagkvæmni Góður stuðningur við fætur Góð áseta Rúmgóður Þunn bólstrun Plássfrekur Takmarkað útsýni fyrir barn Umhirða Má þvo áklæði í þvottavél Auðvelt að fjarlægja áklæði Vönduð smíð

Samtals einkunn

Stoltir söluaðilar um land allt

567-6020 | www.ab.is 37


Reynsluakstur: Mercedes B

Þ

að kann að hljóma ótrúlega en sannleikurinn er sá að nýi G-vagninn frá Mercedes Benz, sem reynsluekið er hér, er opinberlega aðeins önnur kynslóð bílsins. Bíllinn var fyrst framleiddur árið 1979 og fagnar því fertugsafmælinu í ár og hafa vinsældir hans sífellt vaxið með árunum. Ólíkt öðrum langlífum jeppategundum hélt G-vagninn ætíð í einfalda, stæðilega og hornrétta lögun sína og hefur það orðið eitt helsta aðaleinkenni bílsins. Að frátalinni smávægilegri andlitslyftingu á framgrilli bílsins árið 1990 hefur hann verið nær óbreyttur útlitslega frá upphafi árið 1979 til enda fyrstu kynslóðarinnar árið 2018. Innrétting bílsins hefur nú tekið breytingum í takt við aðra fólksbíla Mercedes Benz í áranna rás ásamt vélum, en undirvagn og drifbúnaður helst að mestu eins. Aðallega laðar tvennt fólk að G-vagninum: sterkbyggða og einfalda kassabílaútlitið og óbilandi torfærueiginleikarnir „úr kassanum“. Á móti kemur að þessir vinsælu eiginleikar eiga stóran þátt í því hversu gamaldags bíllinn er og hve mikið hann hefur dregist aftur úr samkeppninni með tilliti til aksturseiginleika á bundnu slitlagi og sparneytni. Með þessar þráðbeinu og lóðréttu línur hefur mikil loftmótstaða ávallt angrað G-Class sem skilar sér í aukinni eldsneytisneyslu og vindgnauði. Sterkbyggð, þunglamaleg grindin með hásingar á hvorum öxli, sem auðveldar yfirferð í hvers kyns torfærum, stuðlar loks að ójafnvægi og takmarkaðri stjórn í beygjum á malbiki. Þetta gerir það að verkum að helstu keppinautar bera höfuð og herðar yfir G-Class í akstri þar sem nær allur aksturinn fer fram á malbiki. Fjöldi nýjunga, sama útlitið Nú víkur sögunni að hinni glænýju annarri kynslóð Geländewagen, eins og hún heitir á frummálinu. Í boði eru þrjár útfærslur: Bensínknúnar, fjögurra lítra V8 G500 (sem reynsluekið var) og G63 AMG 38

og dísilknúin G350d með þriggja lítra, sex strokka vél. Bíllinn, sem kom til Íslands á seinni hluta síðasta árs, er nýr að öllu leyti — eða næstum því. Þótt ótrúlegt megi virðast eru vélin, rúðuvökvasprauturnar á framljósunum, hlífin yfir varadekkið, sólskyggnin, ósjáanleg festing í innréttingu, hurðarhúnar að utanverðu, lamir og læsingar einu hlutirnir sem deilt er á milli kynslóða. Þá vill gleymast að fyrri kynslóðin var alls ekki eins stór og fyrirferðarmikil og ætla mætti. Breiddin var ekki nema 1.824 mm sem er heilum millimetra breiðari en Ford Focus. Nýja kynslóðin hefur hins vegar breikkað um 121 mm og lengst um 56 mm (var áður 4.686 mm). Þessi stærri mál þýða aukið, kærkomið rými fyrir farþega og farangur en að sjálfsögðu aukið flækjustig við lagningu. Gott er að hafa 360° háskerpumyndavél til staðar sem auðveldar verkið ásamt sjálfvirkri bílastæðaaðstoð. Að auki hefur vagninn misst 170 kíló í ferlinu og stendur nú í 2.354 kg, sem er enn heill hellingur. Á sama tíma og ytra byrði bílsins virðist að mestu óbreytt hafa umtalsverðar og kærkomnar breytingar átt sér stað í innra byrðinu. Í stað þess að klippa til og líma hinar og þessar uppfærslur annara Mercedes gerða með misáhrifaríkum hætti í innréttinguna er hún í þetta skiptið hönnuð frá grunni með G-vagninn í huga. Búnaður og stíll innréttingarinnar er vissulega sambærilegur þeim í E- og S-Class bílum af nýjustu gerð en nú passar hún einhvern veginn betur en áður. Þetta er hreinlega dásamlegur staður til að verja tíma sínum. Sætin eru lungamjúk og þykkt leðrið angar af gæðum. Akstursstaðan er há og trónir yfir aðra umferð með útsýni yfir langa vélarhlífina sem hylur urrandi V8-mótorinn. Útsýni á allar hliðar er með ágætum enda eru rúður stórar og liggja þær ekki á neinum flóknum fletum. Í hlut eiga átta ferkantaðar rúður á fjórum lóðréttum flötum. Ágætt rými er fyrir alla fimm farþegana, talsvert meira en í

fyrirrennaranum og skottið rúmar alls 480 lítra. Plássið er vel nýtt, þökk sé stórum afturhlera, lóðréttum flötum og engri skáhallandi þaklínu eins og venjan er í dag. Í stað hefðbundins mælaborðs er 12,3” LCD skjár sem breyta má og aðlaga eftir smekk með snertiflötum á stýrinu sjálfu. Öðrum 12,3” LCD skjá er síðan skeytt saman við mælaborðið og hýsir hann margmiðlunarkerfið. Sá er snertiskjár en er einnig hægt að stýra honum með áðurnefndum snertiflötum á stýrinu og á hálfgerðri tölvumús á miðjustokknum milli framsætanna. Rétt fyrir neðan snertiskjáinn er að finna þrjá mikilvæga takka í sögu G-vagnsins og leiða þeir að næsta kafla um aksturseiginleika bílsins. Það eru takkarnir fyrir driflæsingar bílsins. Í torfæruakstri Ólíkt öllum öðrum lúxusjeppum á markaðnum í dag er G-Benzinn með læsingu á fram- og afturdrifi og á miðjudrifinu. Þannig er hægt að dreifa aflinu jafnt milli beggja framhjóla, beggja afturhjóla og fram og aftur á milli öxla. Nokkuð algengt er að bjóða aðeins upp á eina eða jafnvel tvær læsingar í færari torfærujeppum, en þrjár setja G-vagninn í sérflokk. Til að auðvelda yfirferðina enn fremur er, ásamt níu þrepa sjálfskiptingunni, millikassi með hátt og lágt drif með lækkunarhlutfallið 2,93. Þegar reynsluaksturinn fór fram í byrjun nóvember hafði snjó lagt yfir höfuðborgarsvæðið og gerði það prófunina enn skemmtilegri. Lagt var í leiðangur upp Úlfarsfellið og um „Þúsundvatnaleið“ í von um að fá að láta reyna á læsingarnar og lága drifið. Skemmst er frá að segja að ekki reyndist þörf fyrir búnaðinn sem virkaði þó ósköp vel, svo fær var jeppinn í sídrifna háa drifinu. Í dýrum bílum eins og þessum er of mikið af staðal- og aukabúnaði til að telja upp í einni staðlaðri grein en virku


s Benz G500

hliðarbólstrarnir í sætunum eru einn af þeim torkennilega búnaði sem kom skemmtilega á óvart. Þessi búnaður hefur sést í sportbílum og aflmiklum stallbökum á borð við BMW M5 í tímans rás og er hannaður til þess að styðja við og rétta af ökumann og farþega í kröppum, hröðum beygjum með því að blása út hliðarbólstrana á víxl. Allt kom þó fyrir ekki og voru virku bólstrarnir svo gott sem nauðsynleg viðbót í torfæruakstri, enda héldu þeir ökumanni uppréttum í grófu klettaklifri meðan bíllinn kastaðist til beggja hliða frá grjóti til grjóts. Að auki voru afar gagnleg hallamál í margmiðlunarkerfinu sem sýndu halla langsum og þversum og gat maður því

látið reyna meira og meira á klifurgetuna án þess að eiga á hættu að velta um koll. Hámarkshliðarhalli er uppgefinn 70% (31,5°) og klifurgeta 100% (45°). Nuddið í sætunum kórónaði svo þægindin bæði í strembnum torfærum og í umferðarteppu á Miklubrautinni. Ekki var ýkja mikið vatn í ánum uppi á Hellisheiði þennan dag og var því lítið látið reyna á 700 mm vaðdýpt G-Benzans, þess í stað var ekið þeim mun hraðar yfir þær til að ná tilkomumeiri myndum. Á malbiki Þá víkur sögunni að malbiki, þar sem mest áhersla var lögð á endurbætur umfram

gamla bílinn. Enn er stigagrind undir bílnum með fimm arma fjöðrun með stífan bita og hásingu milli afturhjóla en nú er í fyrsta sinn sjálfstæð Macpherson-fjöðrun að framan. Niðurstaðan er gjörsamlega viðunandi hegðun í akstri á bundnu slitlagi fyrir jeppa sem þennan. Vindgnauð er enn talsvert frá lóðréttum flötum bílsins, þá helst framrúðu og flennistórum hliðarspeglum, en þó talsvert minna en áður, þökk endurbótum á loftflæði bílsins. Hvimleiður vandi fyrirrennarans var ekki bara talsverður hávaði í vindinum, heldur uppsöfnun regns, drullu og skordýra á framrúðunni. Undirstýringin verður vissulega allsvakaleg við smávægileg átök og láta aðrir lúxusjeppar á borð við Range 39


Rover og Audi Q7 betur að stjórn við þessar aðstæður. Þeir eiga þó jafn langt í land í torfærugetu eins og G-Class vantar upp á í fimi á malbiki. Alltaf fyrirfinnast málamiðlanir í aksturseiginleikum og því þarf bara að velja og hafna. Urmull öryggisbúnaðar og akstursaðstoðar var til staðar líkt og akreinaaðstoð, árekstrarvörn og aðlögunarhæfur hraðastillir sem alltaf er gott að eiga í pokahorninu. Sá búnaður, ásamt loftpúðum og byggingu bílsins stuðlaði að því að G-Class hlaut nýverið fimm stjörnur af fimm mögulegum í öryggisprófum Euro NCAP.

Vélin reyndist algjört konfekt: fjögurra lítra, tvíforþjappaða V8 vélin skilar 422 hestöflum og 610 Nm af togi um níu gíra 9G-Tronic sjálfskiptingu. Afköstin eru talsverð fyrir svo þungan jeppa en hann skilar sér úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 5,9 sekúndum í dásamlegu, ánetjandi urri strokkanna átta. Eldsneytiseyðslan var, eins og við má búast, fremur há. Þótt opinberar tölur Mercedes Benz reyni að telja lesendum trú um meðaleyðslu upp á um 12 lítra á hundraðið, reyndust rauntölur 40% – 50% hærri.

Karakter og dramatík Þá er ekki hægt að loka grein um Mercedes Benz Geländewagen án þess að minnast á hurðar og læsingar. Hurðar eru stórar og þungar og skellast eins og þær væru á bankahvelfingu. Eins gott er að smá viðleitni sé til staðar, því að óvenju mikinn kraft þarf til að loka þeim. Eins og greint var frá hér í upphafi eru læsingarnar fengnar beint úr gamla bílnum og er góð ástæða fyrir því. Oft hafa bílablaðamenn hvaðanæva úr heiminum líkt hljóðinu í

Í stað hefðbundins mælaborðs er 12,3” LCD skjár sem breyta má og aðlaga eftir smekk með snertiflötum á stýrinu sjálfu. Öðrum 12,3” LCD skjá er síðan skeytt saman við mælaborðið og hýsir hann margmiðlunarkerfið.

Aðallega laðar tvennt fólk að G-vagninum: sterkbyggða og einfalda kassabílaútlitið og óbilandi torfærueiginleikarnir „úr kassanum“. 40


sjálfvirkum læsingunum við það þegar Kalashnikov AK-47 riffill er hlaðinn og miðað við að upplifun undirritaðs af AK47 er eingöngu fenginn úr bíómyndum er sú lýsing ekki fjarri lagi. Öll þessi dramatík og tilburðir eru hlutar af því sem einkenna karakter G-vagnsins svo vel og eru vinsældirnar tilkomnar m.a. vegna þess. Loks er ekki hægt að virða fílinn í herberginu að vettugi, þar á ég við verðið. Sé lesandi kominn þetta langt í greininni ætti ekki að koma á óvart

að öll þessi herlegheit kosta drjúgan skilding. Það er rétt mat, því að grunnverð á þessum G500 bíl, þegar greinin er skrifuð í mars 2019, er 23.180.000 kr. Þá er ótalinn fjöldinn allur af aukabúnaði sem var í reynsluakstursbílnum líkt og 360° myndavél, bílastæðaaðstoð og hinir og þessir útlits- og þægindapakkar. Niðurstaðan er sú að verðið á reynsluakstursbílnum var komið vel yfir 30 milljónir. Því er vissulega ekki allra að fjárfesta í slíkum grip og ef marka má notaða markaðinn virðist hann ekkert ætla að flýta sér að lækka í verði heldur. Róbert Már Runólfsson

Mercedes Benz G500 4MATIC Aflrás: 4,0 lítra V8 bensínvél með tvær forþjöppur og 9 þrepa sjálfskiptingu með háu og lágu drifi Hámarksafl: 422 hestöfl við 5.250 – 5.500 snúninga Hámarkstog: 610 Nm við 2.250 – 4.750 snúninga Verð frá: 23.180.000 kr Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 12 l/100 km (blandaður akstur) Eldsneytisnotkun (raunakstur): 17,1 l/100 km (blandaður akstur) Losun CO2: 263 g/km Eiginþyngd: 2.354 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.817 / 2.187 (með speglum) / 1.969 Veghæð (mm): 241 Aðfallshorn / Fríhorn / Fráfallshorn: 30,9°/ 25,7° / 29,9° • Útlit • Torfærugeta • Þægindi og gæði • Rekstrarkostnaður

41


Reynsluakstur

SUZUKI JIMNY

42


Þ

að er viðeigandi og hálf kómískt að fylgja eftir grein um 30 milljón króna Mercedes Benz Geländewagen með umfjöllun um litla, snaggaralega eftirhermu í formi Suzuki Jimny. Þessi glænýja kynslóð tekur við af einum af bílaleigubílum Íslands sem, ótrúlegt en satt, hefur verið í framleiðslu frá 1998 sem er þó varla stórfrétt í samanburði við G-vagninn sem fyrst kom fram 19 árum áður en samt góður árangur. Með í huga vinsældir harðgerðra jeppa með kassabílalögun, líkt og fyrrnefnds Mercedes Benz G-Class ásamt Jeep Wrangler, Land Rover Defender og Discovery (að undanskilinni nýjustu fimmtu kynslóð) ákváðu hönnuðir Suzuki að taka þátt í þessum vinsældum. Afraksturinn er fullbúinn jeppi sem gleymdist of lengi í þurrkaranum og kom út í 60% stærð.

Að öllu gamni slepptu er jeppinn stórglæsilegur, sterkbyggður og hefur tignarlega stöðu þrátt fyrir smæð sína. Þemað í hönnun og útbúnaði einkennist af einfaldleika og skilvirkni. Því er aðeins ein vélargerð í boði: 1,5 lítra, fjögurra strokka bensínvél, fáanleg með fimm gíra beinskiptingu eða fjögurra þrepa sjálfskiptingu. Eins og alvöru jeppa sæmir er aflið sent til allra hjóla um millikassa þar sem aftengja má framdrifið í hefðbundnum malbiksakstri eða skipta í lágt drif í torfæruakstri. Þá er bíllinn á sterkri, gamaldags stigagrind með hásingar og þriggja arma fjöðrun á gormum að framan- og aftanverðu. Engar gamaldags, mekanískar driflæsingar eru þó í boði heldur er tölvustýrð hemlastýring sem sér um að dreifa vægi á milli hjóla eftir þörfum með því að beita hemlunum á fríspólandi hjól og senda þannig aflið til þess hjóls er hefur fótfestu um opið mismunadrifið.

Að innan Innréttingin er einföld, nokkuð stílhrein en öll löðrandi í plasti. Takkarnir eru nægilega stórir til að fikta í með hanska á höndunum sem auk þess svarar snertiskjárinn aðgerðum bærilega hjá hanskabúnum ökumönnum. Margmiðlunarkerfið kemur útbúið leiðsögukerfi ásamt Apple CarPlay og Android Auto snjallsímatengingum auk annarra eiginleika. Kerfið er auðvelt og þægilegt í notkun fyrir utan þegar þarf að hækka eða lækka í útvarpinu. Til þess er eins konar snertistika sem á til að vera sein og ónákvæm — hvað var eiginlega að venjulegu skrunhjóli? Ágætt rými er fyrir farþega framsæta, hátt til lofts og hæfileg breidd er á milli sæta, að vísu án armpúða sem væri kærkomin viðbót fyrir löng ferðalög. Aftursætin eru hins vegar nokkuð lítilfjörleg, á stærð við sæti í smábíl af minnstu gerð og ekki við allra hæfi að sitja þar til lengdar nema þá helst smærri einstaklinga. Auk þess eru þau aðeins tvö talsins þannig að hagkvæmni og notagildi eru lítil. Gott er þó að þar er að finna ISOFIX festingar fyrir tvo barnabílstóla. Farangursrýmið er hlægilegt í meira í lagi, rúmar ekki nema 85 lítra með aftursætin uppreist, en öllu skárri 377 lítra með þau niðurfelld.

43


Á malbiki Jimny-inn er ansi lipur í innanbæjarakstri, enda lítill og fisléttur bíll (ekki nema 1.090 kg), léttur í stýri og hæfilega snarpur. Auðvelt er að leggja honum í stæði þar sem hann er afar stuttur og útsýni á alla kanta er til fyrirmyndar, sem er undirstrikað með hárri akstursstöðu. Jimny er innanbæjarbíll og fær því býsna góða einkunn á því sviði. Þegar hraðinn eykst á vegum fer háfættur, stuttur kassabíllinn að finna til sín og koma þar bersýnilega í ljós helstu vankantar hans. Þeir eiginleikar sem gera hann að svo góðum innanbæjarbíl fara smátt og smátt að vinna gegn honum: yfirbyggingin tekur á sig mikinn vind og stutt sporvídd ásamt hásingafjöðrun fá bílinn til að vagga nokkuð í signum hjólförum á íslensku malbiki. Þá hefði gírkassinn gott af sjötta hlutfallinu, því að vinnslan í vélinni verður heldur þvinguð og hávær á 90 km/klst í fimmta gír. Þó má ekki halda að bíllinn sé hættulegur á þjóðvegahraða, heldur er aksturinn fremur minna afslappaður og þarf sífellt að lagfæra stýrið lítillega. Loks er jákvætt að sjá ríkulegan öryggisbúnað í svona ódýrum bíl en akreinavari, umferðamerkjavari og sjálfvirk neyðarhemlun er staðalbúnaður í öllum útfærslum.

Á fjöllum Helsta akstursánægjan kemur svo að bratta eftir myndatöku á fjallstoppinum. sjálfsögðu fram í krefjandi torfærum og þar Þarna kórónast samanburður á rándýrum fær Jimny heldur betur að skína. Farin var Mercedes G-Class og ódýrum Suzuki sama leið upp Úlfarsfell og á G-vagninum Jimny. Á meðan fjalla- og klettaklifur er fáum dögum áður en nú hafði snjó leyst afslappað og áreynslulaust í G-vagninum og við tekið kalt, íslenskt drullusvað. Skal þarf að hafa talsvert meira fyrir hlutunum engan undra á að nokkur munur hafi verið í Jimny en þó kemst hann á þrjóskunni á á frammistöðu þessara tveggja kassabíla. leiðarenda! Báðir höfðu það á toppinn, með mismikilli Vonbrigði í öryggispróufunum vinnu þó. G-vagninn valsaði upp með nuddandi leðurstóla og þýða fjöðrun en Nýlega komu fram heldur óskemmtilegar Súkkan hoppaði og skoppaði á milli steina fregnir þess efnis að Suzuki Jimny hefði eins og fjallageit, gaf aldrei undan en lét valdið vonbrigðum í öryggisprófunum ökumann og farþega þess í stað finna Euro NCAP og skorað aðeins þrjár stjörnur nokkuð fyrir því. Hásingafjöðrunin er liðug af fimm. Sett var út á ófullnægjandi en sterkbyggð. Þar sem hún er ekki sjálfstæð frammistöðu í hliðraðri framanákeyrslu til beggja hliða þrýstist önnur hliðin niður þar sem afmyndun farþegarýmis í veginn þegar hin fer yfir grjóthnullung reyndist í meira lagi og skilaði sér í eða aðra upphækkaða hindrun og tryggir kviðaráverkum á farþegum framsæta og þannig grip í hvívetna. Vissulega er téð höfuðáverkum aftursætisfarþega. Virka ósjálfstæð fjöðrun sjálfur Akkílesarhællinn öryggisbúnaðinum, sem nefndur var hér þegar kemur að aksturseiginleikum í að ofan sem staðalbúnaður, tókst vel að kröppum beygjum á malbiki og stuðlar forða árekstri en orsakaði á sama tíma að veltingi og óstöðugleika. Þegar verst ofaukinn höfuðhnykk aftursætisfarþega lét þurfti að staldra við, skella í lága vegna ófullnægjandi höfuðpúða. drifið og beita meiri lagni til að komast á áfangastað. Heilsársdekkin gerðu verkið Þessar niðurstöður eru vonbrigði svo sannarlega ekki auðveldara og hefði fyrir annars frábæran bíl. Því sem þarna verið gaman að vera á grófari óhefðbundinn, glaðlyndur „lífstílsbíll“ dekkjum. En, eins og áður segir, var hæsta eða vinnuþjarkur er Suzuki Jimny ferskur hjalla náð og því gott að styðja sig við andvari inn í heldur tilbreytingarlausa brekkuaðstoðina (e. Crawl control) sem tilveru smábíla og smájepplinga, studdi við bremsur af natni niður sleipan hagkvæmur og stórskemmtilegur alvöru jeppi. Róbert Már Runólfsson

44


Suzuki Jimny 1,5 GLX Aflrás: 1,5 lítra fjögurra strokka bensínvél og 5 gíra beinskiptingu með háu og lágu drifi

Innréttingin er einföld, nokkuð stílhrein en öll löðrandi í plasti. Takkarnir eru nægilega stórir til að fikta í með hanska á höndunum sem auk þess svarar snertiskjárinn aðgerðum bærilega hjá hanskabúnum ökumönnum.

Hámarksafl: 101 hestafl við 6.000 snúninga Hámarkstog: 130 Nm við 4.000 snúninga Verð: 3.780.000 kr (GLX, beinskiptur) Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 6,8 l/100 km (meðaleyðsla) Farangursrýmið er hlægilegt í meira í lagi, rúmar ekki nema 85 lítra með aftursætin uppreist, en öllu skárri 377 lítra með þau niðurfelld.

Eldsneytisnotkun (raunakstur): 8,5 l/100 km (meðaleyðsla) Losun CO2: 178 g/km Eiginþyngd: 1.090 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 3.645 / 1.645 (með speglum) / 1.720 Veghæð (mm): 210 Aðfallshorn / Fríhorn / Fráfallshorn: 37°/ 28° / 49° • Útlit • Torfærugeta • Ríkulegur staðalbúnaður • Öryggisprófun EuroNCAP

45


REYNSLUAKSTUR

TOYOTA RAV4

F

ramleiðslan þótti framúrstefnuleg hjá Toyota árið 1994 þegar fyrirtækið hóf sölu á RAV4-fólksbílajeppanum sem enginn gat skilgreint nákvæmlega. Og nú, 25 árum síðar og með yfir 8,5 milljón seldra bíla, hefur fimmta kynslóð litið dagsins ljós. Um er að ræða nýjan bíl að nær öllu leyti frá fyrri kynslóð og ræður þar ríkjum nýja TNGA (Toyota New Global Architecture) hönnunarstefna Toyota. Búið er að endurhanna undirvagninn frá grunni sem gefur RAV4 lægri þyngdarpunkt, jafnari þyngdardreifingu, betri fjöðrun og stífari yfirbyggingu,

46

veghæðin hefur aukist um 15 mm, hjólhaf hefur aukist og sjálfur bíllinn hefur lækkað um 10 mm. Hönnun Ytra og innra útlit bílsins hefur einnig tekið miklum breytingum. Hönnunarteymið hjá Toyota hefur greinilega skipt um gír og beitir nú reglustrikunni grimmt á teikniborðinu. Ávalar línur hafa vikið fyrir skörpum brúnum sem auka á jeppaútlit bílsins og þá má sjá þrí- og sexhyrningsform koma fram á ólíklegustu stöðum. Hjólbogar eru samsettir úr þráðbeinum línum og sama má

segja um afturenda, ljós og framgrill. Að innan heldur síðan grófa jeppanálgunin áfram með þríhyrndu munstri á ýmsum stöðum. Snúningstakkar í mælaborði eru gúmmíklæddir og samskonar áferð er einnig á hurðahaldföngum. Þrátt fyrir efnisval hefur Toyota tekist að gera traustvekjandi innréttingu með lúxusyfirbragði. Auðvelt er að framkvæma flestar aðgerðir úr stýri og hægt að nálgast samtímis fjölmargar upplýsingar úr mælaborði. Það getur þótt yfirþyrmandi í fyrstu vegna upplýsingaflæðis en venst


Skottið er rúmgott eða 580 lítrar með flötu gólfi og er því auðvelt að ferma bílinn. Ólíkt fyrri kynslóð er skottplássið það sama hvort um sé að ræða tvinn- eða bensínútgáfu bílsins þar sem rafhlöður bílsins hafa verið færðar undir aftursæti.

furðu vel. Líkt og forverar bílsins er hann þægilegur í umgengni og veitir ökumanni og farþegum gott rými. Voldugur stokkur á milli framsæta býður upp á drjúgt geymslupláss og góðan stuðning við ökumann. Skottið er rúmgott eða 580 lítrar með flötu gólfi og er því auðvelt að ferma bílinn. Ólíkt fyrri kynslóð er skottplássið það sama hvort um sé að ræða tvinn- eða bensínútgáfu bílsins þar sem rafhlöður bílsins hafa verið færðar undir aftursæti. Útbúnaður Reynsluakstursbíllinn var GXútgáfa sem er næsta stig fyrir ofan grunnútgáfuna LX. Næst á eftir kemur RAV4 Style og loks VX þar sem öllu er tjaldað til. Allir eru bílarnir þokkalega vel útbúnir og ýmis staðalbúnaður fylgir en það er ekki algilt að sjá í grunnútgáfu. Til dæmis má þar nefna LED-aðalljós með sjálfvirkum hágeisla, akreinavara og hraðastilli sem fylgir eftir næsta bíl. Auk þess var GX-útgáfan útbúin bakkskynjurum og myndavél, þráðlausri hleðslu fyrir síma og regnskynjara svo að eitthvað sé nefnt. Það hefði verið ánægjulegt að sjá fjarlægðarskynjara bæði að framan og aftan í grunnútgáfunni ásamt bakkmyndavél en sá búnaður er eingöngu í Style og VX útgáfum. Akstur Í húddinu er hvorki meira né minna

en 2,5 Hybrid Dynamic Force mótor ásamt e-CVT rafstýrðri skiptingu. Með öðrum orðum, 2,5 lítra bensínmótor auk 48 kW rafmagnsmótors sem skila saman um 220 hestöflum. Óvænt ánægja var að aka sjálfskiptum 1600 kílóa borgarjeppa sem var einungis rúmar átta sekúndur í hundraðið. Auk tvinn-útgáfu („hybrid“) bílsins er einnig í boði tveggja lítra bensínmótor, annaðhvort beinskiptur eða með rafstýrðri sjálfskiptingu. Engin dísilvél verður í boði og er það í takt við umhverfisstefnu Toyota um að hætta framleiðslu dísilfólksbíla og auka áherslu á framleiðslu tvinnbíla.

Snúningstakkar í mælaborði eru gúmmíklæddir og samskonar áferð er einnig á hurðahaldföngum. Þrátt fyrir efnisval hefur Toyota tekist að gera traustvekjandi innréttingu með lúxusyfirbragði.

Einstaklega skemmtileg samvinna er á milli rafmagns- og bensínmótors í bílnum þar sem vart fannst hvenær ekið var rafmagni eður ei. Í reynsluakstri var bíllinn að eyða um 5,5 – 6 lítrum á hundraðið og var það í samræmi við uppgefnar tölur framleiðanda og má þar þakka nýja WLTP-staðlinum þar sem allir nýir bílar eru mældir við raunaðstæður. Athyglisvert er að eyðsla helst nær óbreytt hvort sem ekið er á þjóðvegi eða innanbæjar þar sem bíllinn nýtir að hluta þá orku sem tapast t.d. við hemlun og hleður inn á geyma bílsins. Gott er að hafa í huga að dráttargeta tvinnútgáfunnar er takmörkuð í samanburði við bensín en leyfð dráttargeta með hemlaðan vagn er einungis 800 kg en 2000 kg

47


á beinskiptan bensínmótor. Fjöðrun og stýri hafa tekið stakkaskiptum frá fyrri kynslóð en þannig svarar bíllinn umtalsvert betur, stýri er nákvæmt og fjöðrun mátulega stíf. Aukið hjólhaf og lægri þyngdarpunktur draga úr veltingi í ójöfnum og bíllinn tekur ekki óþarfa dýfur að aftan þegar ekið er niður af hraðahindrun eða öðrum fyrirstöðum. Niðurstaða Heilt yfir tel ég að Toyota hafi færst verkefnið vel úr hendi. Nýr Rav4 er orðinn umtalsvert skemmtilegri í akstri en fyrri kynslóð og með gjörbreyttri hönnun að utan og innan. Þrátt fyrir að ytra mál bílsins sé svipað og fyrri kynslóðar er bíllinn stærri að innan og komin aukin jeppatilfinning við akstur og umgengni. Hybridtæknin er góður kostur og skilar bílnum vel áfram, ánægjulegt væri að sjá tvinntengil (plug-in) útgáfu til að nýta rafmagnið betur og draga enn frekar úr eyðslu og útblæstri.

48

Rav4 2.5 Hybrid VX FWD

Aflrás: 2,5 lítra fjögurra strokka bensínvél og e-CVT sjálskipting Hámarksafl: 218 hestöfl við 5700 snúninga Hámarkstog: 130 Nm við 4.000 snúninga Verð frá: 5.090.000 kr.

Eiginþyngd: 1.590 kg Lengd / Breidd / Hæð (mm): 4.600 / 1.855 / 1.685 Veghæð (mm): 195 Aðfallshorn / Fríhorn / Fráfallshorn: 37°/ 28° / 49°

Verð á reynsluakstursbíl: 5.950.000 kr.

• Útlit

Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 5,5-5,7 l/100 km (meðaleyðsla)

• Aksturseiginleikar

Eldsneytisnotkun (raunakstur): 6 l/100 km (meðaleyðsla) Losun CO2: 102 g/km

• Eyðsla

• Skortur á fjarlægðarskynjurum í grunn útgáfum


Gefandi að hjálpa fólki í vanda „Það er alltaf nóg að gera í því að aðstoða fólk sem þarf á þjónustu okkar að halda. Þó er minna um að verið sé að laga læsingar en áður. Við erum nú mest í því að aðstoða fólk sem hefur týnt bíllyklum. Enn fremur er nokkuð um að fólk brjóti lyklana sína. Nú er að mestu notuð fjarstýring og nota verður síledrín þegar bíllinn verður straumlaus en það hefur aldrei verið notað og allt situr fast svo að lyklar brotna oft á tíðum. Umfram allt er gaman að koma fólki til hjálpar í neyð,“ sagði Kristján Ibsen Ingvarsson hjá Neyðarþjónustunni í spjalli við FÍB-blaðið.

heim. Lásasmiðir fyrirtækisins þurfa að hafa víðtæka þekkingu á nánast öllu sem snýr að lásum, enda er markaðurinn hér á landi of lítill til að hægt sé að sérhæfa sig á þröngu sviði.

Jón Hafsteinn Haraldsson stofnaði Neyðarþjónustuna ehf. árið 1988 og var hún lengst af staðsett við Laugaveg 168 í Reykjavík. Neyðarþjónustan sinnir almennri lásasmíði, lásaviðgerðum og hvers konar neyðaropnunum, hvort sem um er að ræða húsnæði, bíla eða hirslur. Fyrirtækið rekur verkstæði og verslun þar sem seldar eru lásatengdar vörur. Forritun og smíði bíllykla er stór þáttur í starfseminni, einnig uppsetning, ráðgjöf og viðgerðavinna. Fyrirtækið fagnaði 30 ára starfsafmæli 2018 og hefur því mikla reynslu á sínu sviði. Í október 2018 flutti Neyðarþjónustan að Skemmuvegi 4 í Kópavogi.

Aðspurður hvort ekki væri kostnaðarsamt fyrir bílaeiganda að láta forrita lykla fyrir sig, sagði Kristján Ibsen svo ekki vera.

Neyðarþjónustan hefur það markmið að vera í fremstu röð á sviði bílaopnana og bíllyklasmíði og sérhæfir sig í smíði og forritun fjarstýringalykla fyrir langflestar bílategundir – jafnvel þó að allir lyklar séu týndir. Neyðarþjónustan leggur mikla áherslu á skjóta og góða þjónustu og vönduð vinnubrögð og vinnur eftir siðareglum bandaríska lásasambandsins Hjá Neyðarþjónustunni (ALOA). fá starfsmenn bestu þjálfun sem í boði er hverju sinni. Lásasmiðir Neyðarþjónustunnar eru metnaðarfullir og leggja sig fram um afla sér þekkingar á viðkomandi sviði og fylgjast með nýjungum, enda eru örar tækniframfarir á hverju ári.

Kristján sagði að þeir hjá Neyðarþjónustunni bjóði upp á að smíða lykla í flestalla bíla. Undantekningin er einkum þegar nýir bíla koma á markað og með þeim nýtt kerfi. Þá geta liðið tvö ár áður en búið er að smíða tæki sem hægt er nota til að forrita lykla. Í dag snýst þetta orðið mikið um forritun.

„Sé bíllinn fyrir utan hjá okkur er kostnaðurinn 8.500 krónur að forrita lykil en vanalega þarf fólk hvort sem er að kaupa lykilinn líka. Fjarstýringarlykill í bíl kostar á bilinu 24-29 þúsund. Síðan er nokkuð um að bílar séu komnir með svonefnt lyklalaust aðgengi og þá er mjög misjafnt hvað kostar að forrita fyrir þá. því að oft eru slíkir lyklar einungis til frá verksmiðjunni. Því er allur gangur á því hvernig gengur að fá slíka lykla á þokkalega verði. Verðið á þeim getur verið á bilinu 25-80 þúsund,“ sagði Kristján Ibsen.

Kristján játti því að þetta starf sé gefandi og skemmtilegt þegar hann var spurður. sagði Kristján Ibsen svo vera. Stundum getur verið gott að eiga góða vini í útlöndum „Maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi, allar breytingar gerast hratt svo að maður verður að vera vakandi. Hingað getur komið ákveðin bíltegund af sömu árgerð með fjögur mismunandi kerfi. Svo má ekki heldur gleyma því að það eru margir að flytja t.d. inn bíla frá Bandaríkjunum með allt önnur kerfi. Enga aðstoð er að fá frá bílaumboðunum því að þau hafa oft á tíðum engar upplýsingar. Við þurfum oft að bjarga hlutunum og þá getur oft verið þægilegt að eiga góða vini í útlöndum og fá þannig svör við ýmsum spurningum. Einungis það eitt að fá lykilskurðarnúmer í bíl er oft aðeins hægt að fá í útlöndum í skjóli góðs tengslanets. Það sparar mikla vinnu og tíma að þurfa ekki að taka lásinn út til að smíða lykil,“ sagði Kristján Ibsen. Hvað framtíðina áhrærir sýnist Kristjáni Ibsen lyklalaust aðgengi vera smám saman að taka yfir þó að sumir að hafi kvartað yfir að það sé ekki eins öruggt. Ég veit ekki betur en að hægt að sé að setja Teslu í gang með símanum einum svo að framtíðin er óljós en umfram allt spennandi. Tækni fleygir svakalega hratt fram á þessu sviði.

Í því skyni eru þeir duglegir að sækja námskeið í útlöndum og njóta góðs af frábæru tengslaneti Neyðarþjónustunnar við aðra lásasmiði og samtök um allan 49


Bílar og Íslendingar á Spáni

S

töðugt fjölgar þeim Íslendingum sem flytja til Spánar til lengri eða skemmri dvalar. Sumir setjast að í sólarlandinu og fá sér spænska kennitölu en aðrir láta nægja styttri dvöl, frá viku upp í þrjá mánuði. Langflestir eiga það sameiginlegt að kjósa að hafa bíl til að koma sér á milli staða. Þá er þrír möguleikar í stöðunni: Leigja eða kaupa bíl eða flytja eigin bíl með sér yfir hafið. Það er því í mörg horn að líta fyrir okkur Íslendinga í þessum efnum þegar komið er til dvalar á Spáni. Íslendingar á Torreviejasvæðinu hafa um nokkra kosti að velja. Flestar stóru alþjóðlegu bílaleigurnar eru með aðstöðu á flugvellinum í Alicante þar sem auðvelt er að finna þær. Það getur þó tekið æði langan tíma fá bíl afhentan. Ég hitti nýlega fólk sem beið á þriðja klukkutíma eftir að fá bílinn sem það hafði pantað og borgað fyrir með löngum fyrirvara. Mikilvægt að fólk kynni sér leigu- og tryggingaskilmála „Stóru“ bílaleigurnar eru oftast heldur dýrari en hinar „ódýru“ sem bjóða jafnvel bíla fyrir nokkrar evrur á dag. Sá böggull fylgir þó skammrifi að þær hala oft inn fé

50

með því að selja aukatryggingar sem þær pranga inn á fólk, oft þó að þess þurfi ekki með. Þannig verða ódýru bílaleigurnar oft dýrari en stóru alþjóðlegu leigurnar þegar upp er staðið. Þess vegna er mikilvægt að fólk kynni sér leigu- og tryggingaskilmála vel áður en gengið er frá greiðslum. Gott ráð, áður en gengið er frá leigusamningi, er að kanna hvaða tryggingar greiðslukortin bjóða upp á. Sum greiðslukort innihalda allsherjar ferðatryggingu og inni í þeirri tryggingu eru bæði sjúkra- og bílatryggingar. Greiði maður fyrir bílaleigubíl með slíku korti þarf maður eingöngu að greiða skyldutrygginguna sem fylgir öllum bílum. Þess vegna er óþarfi að kaupa aukatryggingu. Greiðslukortatrygging gildir aðeins í mánuð Þess ber þó að geta að greiðslukortatryggingin gildir aðeins í einn mánuð. Ætli maður að dvelja lengur þarf að skila bílnum áður en mánuðurinn er liðinn, leigja annan bíl og borga þá með greiðslukortinu. Þetta er dálítið umstang en aðili sem ég ræddi við sagði að þetta væri ekkert mál og sparaði mikið fé. Hann sagði jafnframt að reynsla sín væri að fólk

fengi ódýrustu bílana á flugvellinum þar sem maður getur leigt bíl fyrir frá tveimur evrum á dag utan háannatímans.

Íslendingar notar einnig mikið einkabílaleigur og hið sama gildir um aðra Norðurlandabúa. Þá bjóða einstaklingar bíla sína til leigu. Þar eiga oftast í hlut eldri bílar en í ágætu standi. Það er í raun langminnsta vesenið því að þeir eru bæði afhentir og sóttir á flugvellinum. Þessir bílar eru ekki endilega ódýrari en hjá bílaleigunum eða frá fimm og upp í tíu evrur á dag í skammtímaleigu en að sjálfsögðu töluvert ódýrari til lengri tíma. Þeir sem koma til lengri dvalar og velja að kaupa sér frekar bíl þurfa að vera mjög varkárir þegar þeir velja bílasölu til að


sjá um viðskiptin. Þá skiptir engu máli hvort um er að ræða bílaumboð eða bílasalann á horninu. Ég er sjálfur búinn að reka mig á að þjónustan í sumum bílaumboðum er hreint ekki nógu góð meðan hún er þrælgóð hjá öðrum sem selja sömu bíla. Það er því um að gera að spyrja einhverja með reynslu af bílakaupum hverjum sé treystandi og hverjum ekki. Á Quesada-svæðinu eru tvær mjög góðar einkareknar bílasölur sem margir Íslendingar hafa verslað við. Gild skoðunarvottorð frá Íslandi Þeir sem koma til langtímadvalar og vilja taka bíla sína með verða að passa að vera með tryggingar í góðu lagi og að bílar séu með gilt skoðunarvottorð frá Íslandi áður en lagt er af stað. Séu þessir hlutir ekki í lagi er ómögulegt að skrá bílinn á spænsk númer og fá hann skoðaðan hjá bifreiðaeftirlitinu á Spáni (sem heitir ITV). Dæmi er um að lögregla hafi hirt bíla í þessari stöðu og fargað þeim þar sem ekki má hreyfa þá. Því fylgir auðvitað kostnaður að fá bíl frá einu landi skráðan í öðru. Á Spáni skilst mér að ferlið sé að starfsmenn tollstjóra fletti upp í bók og kanni verðmæti bílsins eftir tegund og árgerð og krefji síðan eiganda um 21% toll af því sem bókin segir um verðgildið. Ástand bifreiðarinnar hefur engin áhrif á áætlað verðmæti.

Þægilegt að aka bíla á Spáni Á Spáni er einstaklega þægilegt að aka bílum. Vegir eru góðir og merkingar ágætar. Hámarkshraði á hraðbrautum er frá 100 til 120 km á klukkustund. Tiltölulega stutt er á milli bensínstöðva þar sem maður fær hefðbundna þjónustu eins og við þekkjum á Norðurlöndum. Til þess að greiða fyrir umferð á gatnamótum nota Spánverjar mikið hringtorg. Hafa ber í huga að á Spáni hefur ytri akrein réttinn en ekki sú innri eins og á Íslandi. Torgin eru mörg hver miklu stærri en við eigum að venjast á Íslandi. Langflest hringtorg eru hrein og klár listaverk sem skarta fallegum gróðri, gosbrunnum og skúlptúrum. Sum bílaumboð og bílasalar vara stundum viðskiptavini við því að kaupa ódýrt bensín og olíu á litlu ómönnuðu bensínstöðvunum þar sem oft er seld minna hreinsað eldsneyti en hjá stóru stöðvunum. Mér var t.d. ráðlagt að versla olíu hjá Repsol, Cepsa eða BP. Þær stöðvar eru út um allt á Torrevieja-svæðinu og eru þrælfínar. Allir bílaeigendur þekkja að þeim þarf að sýna sóma. Þá er gott að hafa aðgang að góðu bílaverkstæði en hér eru nokkur svokölluð „Íslendingaverkstæði“ sem landinn sækir til með bíla sína. Á þessum verkstæðum flestum tala einn eða fleiri smávegis í ensku þannig að við flest getum gert okkur skiljanleg. Eitt slíkt mjög

gott verkstæði er í bænum San Miguel del Salinas. Það þjónustar marga Íslendinga og er mjög sanngjarnt í verðlagningu. Þá er sérlega gott réttingaverkstæði, sem Íslendingar sækja mikið til, í bænum Almoradi sem er u.þ.b. 13 km norðan við Torrevieja. Umferðamenning Spánverja er til fyrirmyndar Margir fyllast angist þegar kemur að því að aka bíl í útlöndum. Ég get fullvissað Íslendinga um að allir sem hafa bílpróf á Íslandi geta ekið óttalausir um á Spáni. Vegir eru góðir og vegakerfið með ágætum og auðvelt fyrir okkur Íslendinga að venjast því. Umferðamenning Spánverja er til fyrirmyndar. Þeir taka tillit til allra vegfarenda hvort sem þeir eru akandi, hjólandi eða gangandi. Lögreglan er líka sýnileg og leitast við að veita góða þjónustu. Látið þó lögguna alls ekki sjá ykkur undir stýri við að tala í farsíma. Það kostar ykkur 100 evrur ef þið borgið á staðnum en 200 evrur ef hún neyðist til að senda ykkur reikning. Þetta veit ég. Hef reynsluna og satt best að segja var það góð reynsla. Ég skildi ekki hvað lögregluþjónarnir sögðu og þeir voru jafn skilningslausir í minn garð. Við skildum þó hverjir aðra. Guðni Þ. Ölversson

51


,,Við erum tilbúnir þegar kallið kemur“ S tálkrókur á Selfossi hefur umsjón með FÍB aðstoð á svæði þar sem fer um ein mesta umferð á landinu. Stálkrókur hefur annast þessa aðstoð í tæplega 20 ár og segir Axel Gíslason framkvæmdastjóri að ýmislegt hafi breyst á þessum tíma. Umferðin hafi aukist gífurlega og bílarnir hafi tekið miklum breytingum og þá sérstaklega hvað öryggi þeirra varðar.

„Ég keypti fyrirtækið af félaga mínum og hann var ennfremur með FÍB aðstoðina á sínum snærum. Ég tók við keflinu og hef haldið því alla tíð síðan eða í rösk 20 ár. Ég man tvenna tíma í þessum efnum og má segja að flest sem lítur að rekstrinum hafi tekið stakkaskiptum. Verkefnin hafa aukist til muna með auknum ferðamannastraumi til landsins. Við erum oft að koma erlendum ferðamönnum til aðstoðar sem langflestir eru á eigin bílum en oft aðstoðum við einnig ferðamenn á bílaleigubílum. Þessi aðstoð er aðallega fólgin í flutningi á bílum sem þurfa að komast á verkstæði. Þá aðstoðum einnig fólk sem hefur fest bíla sína og síðan verða bílar rafmagnslausir eins og gerist. Einnig springa dekk og þá kemur stundum fyrir að fólk setur rangt eldsneyti á bílana. Því

er óhætt að segja að í mörg horn er að líta en við erum alltaf til staðar og komum fólki til hjálpar um leið og kallið berst,“ sagði Axel Gíslason í viðtali við FÍB-blaðið.

Axel sagði að þjónustusvæði hans nái að Þjórsá en hann hafi þó stundum sinnt aðstoð allt til Víkur í Mýrdal. Hann segir að tveir einstaklingar komi að aðstoðinni og konan hans sjái um bókhaldið. Starfið sé

spennandi og umfram allt gefandi. Hann viti í raun aldrei hvað morgundagurinn beri í skauti sér. „Við búum yfir ágætum tækjakosti og höfum afnot að fjórum bílum í þetta verkefni. Það skiptir máli til að geta sinn þjónustunni eins vel og hægt er. Sumarið er allaf annasamasti tími ársins og sé ég fram á að nóg verði að gera hjá okkur með hækkandi sól,“ sagði Axel Gíslason.

Ómetanlegt að geta leitað til FÍB

N

emendum í 10. bekk við Foldaskóla í Grafarvogi stendur til boða valgrein við skólann sem nefnist fornám til ökunáms. Í þessu fagi er farið yfir öryggi og ýmsa þá þætti sem tengjast bílum. Hjörtur Gunnar Jóhannesson, starfsmaður FÍB, aðstoðar þar. Hann heimsótti Foldaskóla og fræddi nemendur um allt sem snýr að dekkjaskiptum. Einnig fór fram kennsla í því hvernig maður tengir startkapla og gefur straum. Kristín Helgadóttir Ísfeld, námsráðgjafi við Foldaskóla og ökukennari, kennir fornám ökunáms við skólann. Kristín segir að skólinn hafi boðið upp á þessa valgrein í sex ár en þessi þáttur ökunámsins, að kenna nemendum að skipta um dekk, hefur verið í boði í tvö ár.

52

„Það er mikil ánægja með þessa valgrein í skólanum og unglingarnir eru sérlega áhugasamir. Þeir læra ekki sérstaklega um þennan þátt í ökunáminu sjálfu og því er alveg nauðsynlegt að búa yfir þekkingu sem snýr að dekkjaskiptum og öðrum þáttum. Það er alveg ómetanlegt að geta leitað til FÍB og fá félagið til að veita unglingunum leiðsögn. Aðstoð FÍB í þessum efnum er stórkostleg,“ sagði Kristín Helga. Kristín Helga sagðist viss um að þessi valgrein við skólann væri komin til að

vera. „Það sé afar brýnt að geta veitt nemendunum leiðsögn í þessum efnum, svo mikilvægt að geta bjargað sér sjálfur þegar vandamál koma upp,“ sagði Kristín Helgadóttir Ísfeld.


Vaka endurnýjar bílaflotann sinn V

aka hefur tekið í notkun nýjan dráttarbíl af gerðinni Dodge Ram en bíllinn var sérsmíðaður í Bandaríkjunum. Dráttarbíllinn hefur reynst mjög vel í alla staði og er kærkominn viðbót í endurnýjun á bílaflota fyrirtækisins. Vaka og FÍB hafa átt samstarf á annan áratug en Vaka veitir félagsmönnum í FÍB þjónustu þegar eftir því er óskað allan sólarhringinn.

notum mest og því er mikið öryggi fólgið í að taka inn nýja bíla í þjónustuna sem við veitum með reglubundnum hætti. Bíllinn sem við höfum nú þegar tekið í notkun er útbúinn allra nýjustu tækjum en hann var sérsmíðaður fyrir okkur í

Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Ég fór út ásamt framkvæmdastjóranum til að veita honum viðtöku. Við hlökkum til að veita viðskiptavinum okkar góða þjónusta hér eftir sem hingað til,“ sagði Valdimar Haraldsson.

Valdimar Haraldsson, deildarstjóri akstursdeildar hjá Vöku, sagði í samtali við FÍB-blaðið að ákveðið hefði verið að reyna eitthvað nýtt. Vaka hefði notað Ford til þessa en nýi bílinn sem kom til landsins á dögunum er af gerðinni Dodge Ram 4500. Vaka á jafnframt von á tveimur stærri bílum til viðbótar á næstunni en þeir eru af gerðinni Dodge Ram 5500. Haraldur sagðist eiga von á því að þeir verði komnir í þjónustu í lok sumars. „Það var kominn tími að endurnýja bílaflotann hjá okkur en segja má að bílarnir hjá okkur séu í notkun allan sólarhringinn. Þetta eru þeir bílar sem við

Félagsmanni á Akureyri blöskrar verðið á smurþjónustu F

élagsmaður FÍB, búsettur á Akureyri, hafði samband og kvartaði mjög undan verðið á smurningu á bílnum sínum af gerðinni VW Tiguna. Honum blöskraði einn kostnaðarliðurinn við smurþjónustuna sem snéri að tappa í pönnunni. Svo virðist að skipt sé um þennan hlut í hvert skipti þegar hann fer með bílinn í smurningu. Tappinn kostaði í þetta skipti 1.113 krónur en þegar hann var smurður þar áður, sem var 20. febrúar 2018, kostaði sami tappi 298 krónur. Hér er um ræða hátt í fjórfalda hækkun á einu ári sem verður að teljast

langt úr hófi við fyrstu sýn. „,Óhætt er að segja að þessi hækkun á milli ára hafi komið mér í opna skjöldu. Ég var með bílinn í smurningu hjá Höld á Akureyri og einn liðurinn í smurþjónustunni er að strákarnir þar skipta alltaf um botntappa í smurpönnunni. Ég sá hvað ég borgaði þar áður, hækkunin og mismunurinn á milli ára er langt fram úr hófi. Ég hringdi í Hekluumboðið og þar fékk ég uppgefið hjá þeim 585

krónur. Hækkunin er tæplega fjórföld á milli ára og allir sjá að þarna er á ferð ekkert annað en okur. Þetta er bara eitt og maður spyr sig hvernig er verðlagið á öðrum varahlutum,“ sagði Ragnar Hólm Bjarnason í spjalli við FÍB-blaðið. Óhætt er að taka undir með Ragnari Hólm að þarna er á ferð óeðlileg hækkun á milli ára. Þetta eru skýr skilaboð um að neytendur séu ávallt á varðbergi og fylgist vel með þróun verðlags. Halda skal kvittunum til haga og bera saman verð. Skrifstofa FÍB hefur tekið eftir að neytendavitund félagsmanna á Akureyri er til fyrirmyndar. 53


Vantar

NÝJA lykla? Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Húslyklar Lyklakerfi Sílendrar

Láshús og fylgihlutir Peningaskápar Hurðapumpur

Skemmuvegi 4, Kóp. . www.las.is . s: 510 8888 . Opið alla virka daga 8-17

54


Aðalskoðun hf. Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði Sími 590 6900 www.adalskodun.is Skeifan 5 (hjá vínbúðinni) sími 590 6930 Grjóthálsi 10 (við vesturlandsveg) sími 590 6940 Skemmuvegur 6, Kópavogi sími 590 6935 www.adalskodun.is Frumherji hf. Hestshálsi 6-8, Reykjavík Skeifunni (Grensásvegi 7) Reykjavík Gylfaflöt 19, Grafarvogi, Dalvegi 22, Kópavogi Garðatorgi, Garðabæ, Sími 570 9090 frumherji.is Dalshraun, Hafnarfjörður, Sími 570 9217 Tékkland Borgartún 24, 105 Reykjavík Holtagarðar, Reykjavík s. 414-9914 Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður s. 414-9912 Dalsbaut 1, Akureyri sími. 414-9916

BÍLAHÚS

Bergstaðir - Bergstaðastræti 6, 101 Rvk. Kolaport - við Seðlabanka Íslands, 101 Rvk. Ráðhúskjallari - við Ráðhús Reykjav. 101 Rvk. Stjörnuport - Laugavegi 94, 101 Rvk. Traðarkot - Hverfisgötu 20, 101 Rvk. Vesturgata - Vesturgötu 7, 101 Rvk. Vitatorg - Skúlagötu/Vitastíg, 101 Rvk. Nánari upplýsingar www.bilastaedasjodur.is

BÍLARÉTTING, SPRAUTUN,TJÓNAMAT

Arctic trucks ehf. Klettshálsi 3, 110 Reykjavík Sími 540 4900, www.arctictrucks.is A.B. skálinn, Gagnheiði 11, Selfossi s. 482 2200 Bifreiðaverkst.Kaupf. Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími. 455 4570 fax.455 4571 Bílamálun Egilsstöðum ehf. Fagradalsbraut 21 Sími 471 2005, 700 Egilsstöðum, Bílamálunin Lakkhúsið, Smiðjuvegi 48 200 Kópavogi, Sími 567-0790, www.lakkhusid.is Bílar og tjón ehf.Skemmuvegi 44m Bleik gata 200 Kópavogi, Sími 578 5070, www.bilarogtjon.is Bílasprautun og réttingar Hjartar Smiðjuvegi 56 rauð gata, Kópavogi, S.587 9020, rettingar.is Bliki- Bílamálun og réttingar ehf, Smiðjuvegi 38 gul gata, 200 Kópavogi,S.567 4477 Bílverk BÁ ehf, Gagnheiði 3, 800 Selfossi Sími 482 2224, Fax 482 2354 www.bilverkba.is 5 stjörnu vottað, bilverkba@simnet.is Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík S. 567 8686 Lakkskemman ehf.Skemmuvegi 30, blá gata 200 Kópavogi, Sími 557 4540 Réttingaverk ehf,Hamarshöfða10,RvkS.5674343 Réttingaþjónustan ehf, Smiðjuvegi 40, gull gata Kópavogi, s. 557 6333, rettingathjounstan@itn.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Réttur – bílaréttingar, Funahöfða 17, 108 Reykjavík s. 587 6350, F 587 6351, rettur.net Smáréttingar ehf. – Réttingaþjónusta Smiðjuvegi 36 gul gata, 200 Kópavogi S.588 4644 Víkur-ós ehf, Bæjarflöt 6, 112 Reykjavík Sími 587 7760, Fax 587 7761, www.vikuros.is

BÍLASÖLUR

Bílver ehf. Innnesvegi 1, Akranesi s.431 1985, Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 471 1436, Nýir og notaðir

BÍLAVARAHLUTIR

AB Varahlutir, Bíldshöfða 18, Rvk, s.567 6020 E.T. Einar og Tryggvi, Klettagarðar 11 Rvk, S. 568 1580, F. 568 0844 www.et.is Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík Sími 520 8000, www.stilling.is Volvovarahlutir.is Parts4u.is, Febest.is Varahlutaverslunin Kistufell ehf, Brautarholti

105 Reykjavík, Sími 562 2104, www.kistufell.is Mekonomen, Smiðsbúð 2, 210 Garðabær, Símli 527 2300, www.mekonomen.is Ljósboginn ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík Sími 553 1244, ljosboginn@simnet.is

BÍLAUMBOÐ

Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sími: 590 2100, www.askja.is Bernhard, Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík Sími: 520 1100, www.bernhard.is Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8, 110 Reykjavík Sími: 5157000 www.brimborg.is BL, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 525 8000 www.bl.is Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, 110 Reykjavík Sími: 590 2000, www.benni.is Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Toyota, Kauptún, Garðabær Sími: 570 5070, www.toyotakauptuni.is Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími: 568-5100, www.suzuki.is

ALMENN BIFREIÐAVERKSTÆÐI

Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, rauð gata, Kópavogi Sími 557 2540, Verkstæði/smurþjónusta, bilhusid.is Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d, rauð gata 200 Kópavogi, Sími 557 6400, Fax 557 7258 Bifreiðaverkstæðið Baugsbót, Frostagötu 1b, 603 Akureyri S.462 7033, Metanísetningar Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar Smiðjuvegi 22, græn gata, 200 Kópavogi Sími 567 7360, Fax 557 7374, www.bfo.is Bifreiðaverkstæði Grafarvogs ehf, Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík, Sími 577 4477, Þjón. Bílabúð Benna Bifreiðaverkstæði Jónasar, Skemmuvegi 46, 200 Kópavogur, sími 557 1430. www.jonasar.is Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri Iðjuvöllum 5, 880 Kirkjubæjarklaustri S.487 4630, Gsm 820 4515, Verkstæði, hjólbarðaverkstæði, Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, S.455 4570 F.455 4571 Bifreiðaverkstæðið Pardus. Suðurbraut 565 Hofsósi, S.453 7380 pardus@pardusehf.is, Bílanes – Grandanes ehf. Bygggörðum 8, 170 Seltjarnarnesi S.561 1190, GSM 698 2212. Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, Almennar viðgerðir. Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 4705070, www.bva.is Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílaþjónusta Péturs ehf, Vallholti 17, 800 Selfossi Sími 482 2050, Alhliða viðgerðaverkstæði, smurstöð Bíljöfur bifreiðaverkstæði ehf. - biljofur.is Smiðjuvegi 34, 200 Kópavogi, Sími 544 5151 Bílstál ehf, Askalind 3, Kópavogi Sími 564 4632 Bílver ehf, Innnesvegi 1,300 Akranesi S. 431 1985 Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Jeppasmiðjan ehf,Ljónsstöðum Árborg 801 Selfossi Sími 482 2858, Fax 482 1004, Varahlutir/breytingar Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi S. 564 1268, Þjónusta fyrir Renault, Hyundai, Land Rover, BMW Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Vélastilling sf, Auðbrekku 16, 200 Kópavogur

Sími 554 3140, Fax 564 4460, velastilling@simnet.is Vélrás Bifreiða- og vélaverkstæði velras@velras.is Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Sími 577 6670

BÍLSKÚRSHURÐIR OG OPNARAR

BIFREIÐAÞJÓNUSTA

BIFREIÐASKOÐUN

Glófaxi ehf. blikksmiðja, Ármúla 42, 108 Reykjavík Sími 581 2900, Fax 588 8336, www.glofaxi.is Héðinn, Gjáhellu 4, Hafnarfjörður, Sími 5692100 Bílskúrshurðaþjónustan, sími 892 7285

BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐVAR Bílaþvottastöðin Löður ehf, Sími 544 4540, www.lodur.is

HJÓLBARÐAR OG ÞJÓNUSTA

Barðinn Skútuvogi 2, Reykjavík, s. 568-3080. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími 455 4570 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, bilvogur@simnet.is Dekkjahöllin, Skeifan 5, 108 Reykjavík, S.581 3002 Draupnisgata 5, 600 Akureyri S. 462 3002 Þverklettar 1, sími 471 2002, www.dekkjahollin.is Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hátúni 2a 105 Reykjavík, Sími 551 5508 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Gylfaflöt 3 112 Reykjavík , Sími 567 4468 Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Sólning hf, Smiðjuvegi 68-70, 200 Kópavogi Sími 544-5000, www.solning.is Njarðvík, Fitjabraut 12, s.421-1399 Selfossi, Austurvegi 52, s,482-2722 Hafnarfjörður, Rauðhellu 11, s. 568-2035 Hafnarfjörður, Hjallahraun 4, s. 565-2121 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is

PÚSTÞJÓNUSTA

Kvikk Þjónustan, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Drangahrauni 1, Hafnarfirði, s. 520 0600 kvikk.is

KERRUR OG DRÁTTARBEISLI

Vagnar og þjónusta,Tunguhálsi 10, Rvk s.567 3440

VERSLUN, LÁSASMIÐIR OG ÞJÓNUSTA

Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík Sími 567 2330, Fax 567 3844, bilasmidurinn.is Neyðarþjónustan lykla- og lásasmiður Skútuvogur 11, Reykjavík, s.5108888 Neyð.8006000

RAFGEYMAR OG ÞJÓNUSTA

Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17, 220 Hafnarfirði Sími 565 4060, www.rafgeymar.is Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík S. 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Skorri ehf, Bíldshöfða 12, 110 Reykjavík Sími 577 1515, Fax 577 1517, www.skorri.is

SJÁLFSKIPTIVIÐGERÐIR

Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi,S. 564 1268

SMURSTÖÐVAR

Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 14 00, bilaattan@bilaattan.is Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Smurstöðin Fosshálsi, Fosshálsi 1, Rvk s.567 3545 Smurstöðin Akranesi, Smiðjuvöllum 2, S.431 2445 Stimpill ehf, Akralind 9, Kópavogi, Sími 564 1268 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is

VINNUVÉLAR

Vélfang ehf, Gylfaflöt 32, 112 Reykjavík Sími 580-8200, velfang@velfang.is www.velfang.is

55


Varahlutir í bílinn Lægra lántökugjald við Ve r ksmiðju ávistvænum byrgð á þ í n u m b í l er tr y g g ð m eð kaup á bílum vot t u ðu m va rah l u tu m f rá Sti l l i n g u Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi við fjármögnun bíla sem skilgreindir eru sem vistvænir.

Smursíur

Rafgeymar

Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar

Tímareimar og vatnsdælur

Kúplingar

Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir

56

Landsbankinn

Allt fyrir bílinn landsbankinn.is 410 4000 St il l in g hf. | Sí mi 5 2 0 8 0 0 0 | w w w. s t i l l i n g . i s | s t i l l i n g @ s t i l l i n g . i s


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
FÍB Blaðið 1. tbl. 2019 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu