Skip to main content

Fibbladid 1. tbl 2015

Page 1

1.tbl. 2015

F É L A G

Í S L E N S K R A

B I F R E I Ð A E I G E N D A

VANRÆKT VEGAKERFI

BYLTINGAKENNDUR HJÓLBARÐI BÍLAVERKSTÆÐUM GERT ERFITT FYRIR

SPARNEYTUSTU OG ÖRUGGUSTU BÍLARNIR

ERLING ANDERSEN: ÁRIN Í VEGAAÐSTOÐINNI

SUMARDEKKJAKÖNNUNIN BIFREIÐAÞJÓNUSTA FÍB VERSLUN AFSLÆTTIR SHOW YOUR CARD 1


2


3


H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 5 - 0 6 2 2

Nýr og ferskur Mercedes-Benz B-Class Fáanlegur fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class er kominn í nýrri útfærslu. Útlitið er ferskara og nú fæst þessi vinsæli bíll sjálfskiptur með 4MATIC fjórhjóladrifi sem gerir hann enn meira spennandi kost við íslenskar aðstæður. Nú fæst B-Class aftur sem metanbíll, en er að sjálfsögðu líka í boði sem bensín- og dísilbíll.

Komdu í Öskju og reynsluaktu nýjum B-Class.

LÖÐUR

ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is 4 Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi

Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook


H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 5 - 0 6 2 2

ÚTGEFANDI FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Ritstjóri Stefán Ásgrímsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson HÖFUNDAR EFNIS RUNÓLFUR ÓLAFSSON Stefán Ásgrímsson Örnólfur Thorlacius Ljósmyndun Stefán Ásgrímsson UMBROT / AUGLÝSINGAR Bogi Auðarson bogi@fib.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 16.500 FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA skúlagata 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Fax: 414-9998 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is FÍB Blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 7.260.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið Forsíðumynd: FÓlk að fylgjast með sólmyrvanum

ÞJÓÐARÁTAK GEGN VANRÆKSLU Það fer vart framhjá neinum að vegakerfi okkar er í slæmu ástandi vegna vanrækslu og rangra ákvarðana. Á landsbyggðinni endurspeglast þetta í því að þingmenn berjast fyrir vinsælum stórframkvæmdum eins og jarðgöngum á þeim stöðum og svæðum kjördæma sinna þar kjósendur eru flestir. Sjálfsagt telja þeir líklegra að ná endurkjöri út á góð jarðgöng á fjölmennu svæði en að stuðla að því að útrýma einbreiðum brúm og öðrum slysagildrum hingað og þangað þar sem enginn kjósandi býr, eða bæta samgöngur við fámennar sveitir og kvótalaus sjávarþorp, svo dæmi séu nefnd. Í höfuðborginni ræður nú fólk ríkjum sem lítinn skilning hefur á mikilvægi góðra samgangna og greiðrar umferðar fyrir búsetu, atvinnusókn, atvinnustarfsemi og skólasókn barna og fullorðinna í fámennri en víðlendri borg. Þrengt er stöðugt og markvisst að bifreiðanotkun og –umferð með hraðahindrunum og þrengingum á umferðaræðum í þeirri trú að reiðhjól og strætisvagnar geti og skuli leysa bílinn af hólmi. Hreyfanleiki almennings er einn af grunnþáttum góðra samfélaga og samgöngukerfinu má líkja við æðakerfi. Ef hnökrar koma á það eða stíflur myndast er voðinn vís. Það getur því vart talist boðlegt að kjörnir fulltrúar almennings vanræki þetta æðakerfi samfélagsins. Það er heldur ekki boðlegt að samgönguframkvæmdum sé forgangsraðað

með því að etja saman fólki eftir búsetu þess, etja saman mismunandi tegundum umferðar og leggja hindranir í veg einnar tegundar umferðar en hygla annarri. FÍB er ávallt tilbúið til samstarfs um góðar og skynsamlegar lausnir sem stuðla að greiðri, fjölbreyttri, öruggri, umhverfismildri, hagkvæmri og sjálfbærri umferð í þágu allra landsmanna. FÍB hefur í gegn um alþjóðasamstarf sitt beinan aðgang að bestu sérfræðiþekkingu og kunnáttu í umferð og skipulagningu hennar og er tilbúið til þess hvenær sem er að miðla þeirri þekkingu til þeirra sem hafa tekið umferðarmál að sér fyrir hönd almennings. Minnt skal á að mörg erlend systurfélög FÍB eru upphaflega einhvers konar ferðaklúbbar m.a. reiðhjólaklúbbar, eins og t.d. hollenski klúbburinn ANWB. Hollendingar hafa lengi verið og eru mikil reiðhjólaþjóð og hafa þeir langa reynslu af því að skipuleggja samhliða umferð reiðhjóla, bíla og gangandi þannig að vel og árekstrarlaust fari saman. FÍB er hvenær sem er reiðubúið til að miðla þekkingu og kunnáttu systursamtaka sinna til þeirra sem stjórna samgöngumálum á Íslandi. Það er engin ástæða fyrir Íslendinga að vera eyða tíma, fjármunum og fyrirhöfn í það að reyna að „finna upp hjólið.“ Aðrir eru búnir að því fyrir löngu.

Runólfur Ólafsson Framkvæmdarstjóri

5


1.609 KM

Efnisyfirlit 8

14

HRAÐA Á BÍL

ESB dregur í land með lífeldsneytið

10 Vanrægt vegakerfi 14 1.609 km hraða á bíl 16 Sumardekkjaprófun

37 EITUREFNI FINNST Í

22 Rafmagnsvespur - ný umferðalög

BARNABÍLSTÓL

24 Bílaverkstæðum gert erfitt fyrir 26 Bílaviðskipti á netinu 27 Tjónabílar - vilji til úrbóta 28 Sparneytustu og öruggustu bílarnir 30 Bílakaup? Skoðaðu bílinn rækilega 32 Nýr byltingakenndur hjólbarði 33 Bílnúmerum stolið 34 Landsþing FÍB

10

36 Kappakstur með áhanganda

VANRÆKT VEGAKERFI

37 Eiturefni finnst í barnabílstól 38 Erling og árin í vegaastoðinni 44 Lítilsigld framganga tryggingafélags 45 Skrýtnar verðupplýsingar bílaumboðs 46 Bílasýningin í Genf 50 Innsend bréf 51 Vefverslun FÍB 52 Nýjir samstarfsaðilar 53 Show your card 54 Bifreiðaþjónusta

16

SUMARDEKKIN

2015

BÖRN Á VÉLHJÓLUM

N

ý umferðarlög tóku gildi 1. apríl sl. Samkvæmt þeim mega nú allt niður í 13 ára börn ferðast á léttum vélhjólum í allri umferð - á göngu- og hjólastígum en ekki bara þar, heldur líka á götum og á vegum þar sem hámarkshraði er allt að 90 km á klst. Hin vélknúnu farartæki barnanna eru hvorki skráningar- né tryggingaskyld og engar hæfnis- eða þekkingakröfur um akstur og umferð, lög og reglur eru gerðar til barnanna og óvissa er um hvaða tryggingar gilda ef slys verða.

6

Það var samgöngunefnd alþingis sem taldi nauðsynlegt að breyta frumvarpinu frá upphaflegri gerð þess og heimila barnaaksturinn. Og svo breytt rann frumvarpið í gegn um þingið og varð að lögum þann 1. apríl sl. Allir þeir sem inntir voru álits á frumvarpinu hafa lýst undrun sinni á þessum breytingum samgöngunefndar, þar á meðal fagráð innanríkisráðuneytisins um umferðaröryggi. Eva María

Jónsdóttir formaður ráðsins sagði í sjónvarpsfréttum 29. mars sl. að lögin með áorðnum breytingum samgöngunefndar þingsins væru mikil afturför sem ógnaði umferðaröryggi og að alþingi ætti að taka lögin til endurskoðunar hið bráðasta. Undir það skal tekið.

Stefán Ásgrímsson ritstjóri


Nýir bílar á betri kjörum! Lykillán er hagkvæm leið til að eignast bíl. Með Lykilláni bjóðum við nú hærra lánshlutfall og lægri vexti.

10% útborgun af nýjum bíl

Lægstu vextir

8,0%

Lán til allt að 7 ára

Lykillán

Nýir bílar

1

Þú finnur bíl sem hentar þínum þörfum.

2

Við fjármögnum allt að 90% af kaupverði bílsins.

3

Við aðlögum greiðslubyrðina að þínum fjárhag.

Lykill er hluti af Lýsingu hf. I Ármúla 1 I 108 Reykjavík I lykill.is I lykill@lykill.is

7


ESB DREGUR Í LAND MEÐ LÍFELDSNEYTIÐ BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR

Setur 6% þak á matjurtaeldsneyti Árið 2013 tóku gildi lög um að blanda skyldi svokölluðu endurnýjanlegu eldsneyti út í bifreiðaeldsneyti. Þetta átti að gerast í áföngum fram til ársins 2020. Þá skal hlutfall hins endurnýjanlega vera orðið 10 prósent þess eldsneytis sem í dælt er á bíla landsmanna. Í raun eru lögin tilskipun frá Evrópusambandinu. Tilgangur hennar er að hækka hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis í heildarsölu á eldsneyti og þar með að minnka kolefnisútblástur. Olíufélögunum var síðan í sjálfsvald sett hvernig þau næðu markmiðunum um hlutfall endurnýjanlega eldsneytisins. Þau máttu ráða hvort þau næðu þeim með því að blanda lífrænni olíu saman við dísilolíu eða með því að blanda spíra (metanóli eða etanóli) saman við bensín eða hvoru tveggja. En hlutfall hins endurnýjanlega á samkvæmt lögunum að vera nú orðið a.m.k. 3,5 prósent og verða 5 prósent í lok yfirstandandi árs. Íslensku olíufélögin hafa verið treg til að fara út í metanól og etanólíblöndun í bensín af ýmsum ástæðum, eins og þeim að margir bílaframleiðendur leggjast gegn því

8

vegna meintrar hættu á skemmdum á vélum og búnaði bílanna. Þá er ennfremur hætta á tæringu og skemmdum á tönkum og dælum olíufélaganna. Þau hafa því mætt kröfum laganna hingað til með því að flytja inn mjög dýrar lífrænar olíur og blandað í dísilolíuna. Talið er að þessi innflutningur hafi þegar kostað neytendur tæpan milljarð. En frá því að ESB-tilskipunin um þessa íblöndun var sett saman hafa ýmis viðhorf breyst: Augu fjölmargra, ekki síst áhrifafólks í stjórnmálum, m.a. í Evrópusambandinu, hafa opnast fyrir því að það er siðferðilega vafasamt að taka ræktarlönd í stórum stíl og rækta þar eldsneyti á bíla, m.a. á Íslandi í stað þess að rækta matvörur fyrir fátækt fólk suðlægari landa. Eldsneytisræktunin hefur líka valdið hækkandi matvöruverði, ekki síst á maís. Stóraukin eldsneytisræktun hefur auk þess haft í för með sér að nýtt ræktarland hefur verið brotið með því að eyða skógum, þ.a.m.

regnskógum, sem hefur mjög óæskileg umhverfisáhrif í för með sér. Að öllu þessu athuguðu hafa ýmsir þeir sem áður studdu eindregið eldsneytisræktun dregið í land, þar á meðal Al Gore og nú síðast Evrópuþingið sem nýlega samþykkti að setja 6 prósenta þak á notkun eldsneytis sem búið er til úr matjurtum eins og t.d. maís. Þingið heyktist þó á því að ganga alla leið og hreinlega hætta þessari ræktun. Það var vegna þrýstings frá ræktendum og framleiðendum lífeldsneytis sem á sínum tíma fóru út í þessa starfsemi vegna tilskipana sambandsins um notkun lífræns eldsneytis sem oft er kallað sjálfbært. Þetta er orðinn stór atvinnuvegur og við það að snúa frá þessari „sjálfbærni“ myndu störf tapast í miklum mæli og efnahagskerfi riðlast.


Við fjármögnum flest milli himins og jarðar: flæðilínur, flutningatæki, flugvélar, fjórhjól, ferðaþjónustu, farartæki, ferðavagna og fjölmiðlatæki – og líka fjölmarga aðra hluti sem ekki byrja á f. Við aðstoðum með ánægju.

9


ÁSTAND VEGA OG GATNA

FÍB LÝSIR EFTIR ÞJÓÐARÁTAKI Í VEGAMÁLUM

Þ

ær fyrirætlanir umhverfisog skipulagssviðs Reykjavíkurborgar að vinda sér í það að þrengja akbrautir Grensásvegar frá Miklubraut að Bústaðavegi með ærnum tilkostnaði virðast eiga fram að ganga þrátt fyrir að hafa mætt verulegri andstöðu. Til stendur að leggja 205 milljónir króna í það að breyta þessum kafla Grensásvegar þannig að einungis ein akrein verði í hvora átt í stað tveggja eins og nú er. Þetta þýðir að önnur akrein hvorrar akbrautar um sig verður gerð að reiðhjólabraut. Breytingarnar eru hluti þess markmiðs þverpólitísks meirihluta í stjórn höfuðborgarinnar að þrengja sem mest að bílanotkun og ..... „gera borgina að betri hjólaborg,“ eins og Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar orðaði það í samtali við Morgunblaðið 15. nóvember 2014. Hættulegar götur Vegna fjárskorts og þar með langvarandi vanrækslu og ónógs viðhalds og mjög erfiðs tíðarfars er ástandið í vegakerfinu og á helstu umferðargötum höfuðborgarinnar 10

nú óvenju slæmt. Djúpar rásir og krappar, djúpar holur eru í malbikið eða olíumölina hvarvetna, sem bæði eru stórháskalegar og valda fjölda vegfarenda daglega bæði lífshættu og eignatjóni. Ástandið á vega- og gatnakerfi höfuðborgarinnar er trúlega það versta nokkru sinni. Samgöngustjóri borgarinnar sagði aðspurður um ástandið í samtali við við DV, þann 10. febrúar sl. að borgin vildi gjarnan sinna viðhaldi betur en skort hafi fjármagn. Í ljósi þeirra orða hlýtur það að teljast æði sérkennilegt að á sama tíma og fjárskortur hindrar að stórháskalegum slysagildrum í vegum og götum höfuðborgarinnar sé útrýmt, séu handbærar 205 milljónir til að ráðast í raka- og forsendulausar breytingar á Grensásvegi svo ekki sé nú talað um þær breytingar sem þegar er búið að gera á Borgartúninu, Snorrabrautinni, Sæbrautinni og mörgum fleiri götum og allar hafa sannarlega kostað sitt. En öll þessi framannefndu gæluverkefni eru ekki gerð af neinu handahófi. Þau eru hluti skilgreindrar og ríkjandi skipulagsog samgöngustefnu borgarinnar sem í stórum dráttum felst í því að þrengja stöðugt og markvisst að bifreiðanotkun og –umferð með hraðahindrunum og þrengingum á

umferðaræðum undir því yfirskyni að reiðhjól og strætisvagnar geti og skuli leysa bílinn af hólmi. Stefnan er svo skýr í hugum hinna ráðandi að ekki er talin ástæða til þess að gera neinskonar forrannsóknir eins og umferðartalningu og – greiningu, eða að meta hugsanlega slysahættu eða önnur áhrif breytinganna. Formaður umhverfis og skipulagssviðs staðfesti í raun þetta í viðtali við Morgunblaðið um breytingarnar fyrirhuguðu á Grensásveginum fyrir ekki svo löngu. Þar sagði hann að málið væri ekki fullmótað og einvörðungu hefðu verið send drög að breytingartillögu til borgarráðs. Enn ætti eftir að útfæra tillögurnar nánar, bæði hvað varðar gróðursetningu meðfram Grensásvegi og lagningu hjólastíga. Formaðurinn var síðan spurður hvort það væri ekki enn verið að þrengja að einkabílnum með tillögu um slíka þrengingu: „Jú, það má svo sem alveg orða það þannig en gatnakerfið hér í Reykjavík hefur fyrst og fremst verið byggt upp fyrir einkabíla. Við lítum svo á að með þessu séum við að bjóða borgarbúum upp á fjölbreyttari ferðamáta. Hvatinn að þessu er að gera borgina betri hjólaborg.“


-vanrækt vegakerfi - slysagildrur ekki lagfærðar vegna fjárskorts – burt með trafalastefnuna

Mismunandi umferð att saman Skilningsleysi kjörinna fulltrúa bæði borgarbúa og landsmanna gagnvart bifreiðaumferð hefur farið vaxandi undanfarin ár og eru einkennin margvísleg. Á landsbyggðinni endurspeglast þetta í því að þingmenn berjast fyrir vinsælum stórframkvæmdum eins og jarðgöngum á þeim stöðum og svæðum kjördæma sinna þar kjósendur eru flestir og því líklegra að ná endurkjöri út á góð jarðgöng á slíkum stað en að útrýma einbreiðum brúm hingað og þangað þar sem enginn kjósandi býr, eða bæta samgöngur við vestfirskar byggðir, eða kvótalaus austfirsk sjávarþorp, svo dæmi séu nefnd. Í höfuðborginni er það orðið áberandi hve skilningur ráðamanna hefur minnkað á mikilvægi góðra samgangna og greiðrar umferðar fyrir búsetu, atvinnusókn, atvinnustarfsemi, skólasókn barna og fullorðinna og almennt fyrir þörfum íbúanna. Þrengt er stöðugt

og markvisst að bifreiðanotkun og –umferð með hraðahindrunum og þrengingum á umferðaræðum undir yfirskyni þess að reiðhjól og strætisvagnar geti og skuli leysa bílinn af hólmi. Einstökum tegundum umferðar er att saman hverri gegn annarri sem er sérlega ámælisvert, ekki síst vegna þess hve hættulegt það er. Umferð reiðhjóla skal hiklaust blandað saman við gangandi umferð og við þunga bílaumferð. Sú aukna slysahætta sem af þessu leiðir ætti að vera flestum ljós. Enginn vilji er til þess að fara að dæmi þeirra þjóða sem búa að margra áratuga reynslu í því að skipuleggja umferðina þannig að gagnkvæmur skilningur og sátt ríki milli einstakra tegunda umferðar. Um þetta skilningsleysi ríkir meira og minna þverpólitísk sátt innan stjórnar höfuðborgarinnar. Sá stóri hópur íbúa hinnar dreifbýlu, hæðóttu og vindasömu og nú undanfarið snjóþungu höfuðborgar Íslands sem er á fullu í lífsbaráttunni

og með börn á skólaaldri, hefur verið furðu þolinmóður gagnvart þessari samgöngustefnu sem í stuttu máli felst í því að leggja manngerða trafala í veg bílaumferðar í því skyni að þvinga fólk upp í strætisvagna og reiðhjól. En fjölmargt bendir til þess að mörgum sé farið að þykja að nóg sé komið. Sífellt fleiri láta í sér heyra og lýsa vanþóknun sinni á stefnu og vinnubrögðum yfirvalda sem láta það að mestu ógert, nema tilneydd, að bera hana og einstakar, flestar furðu misráðnar trafalaframkvæmdir undir íbúa, vegfarendur og mikilvæga þjónustuaðila eins og t.d. lögreglu, slökkvilið, sjúkraflutningamenn og hjálparliða sem þurfa að bregðast skjótt við á hættustundum. Dæmin eru fjölmörg: Þrengt er að íbúum gamalla hverfa með nýjum tröllauknum bílastæðafátækum nýbyggingum. Búinn er til bílastæðaskortur og þrengingar og trafalar fyrir bílaumferð eru settir upp á megin umferðargötum. Dæmi um slíkt eru Hofsvallagata, Hringbraut, Snorrabraut, Borgartún, Ánanaust og fyrirhugaðar þrengingar 11


á suðurhluta Grensásvegar og fjölmargt annað sem tíundað er rækilega í nýju aðalskipulagi.

ÁSTAND VEGA OG GATNA

„Þétting byggðar“ Nú er verið að þétta byggð mjög verulega í gamla miðbænum, á Háskólasvæðinu og á flugvallarsvæðinu. Stefnt er á að nýr og enn umfangsmeiri Landspítali rísi á núverandi svæði við Hringbrautina. Miklar byggingaframkvæmdir eru ýmist hafnar eða standa fyrir dyrum allt frá Skuggahverfishluta Skúlagötu að Ánanaustum. Á sama tíma er samgöngunum sinnt með því móti að tefja og hindra enn frekar bílaumferð að og frá miðbænum um Mýrargötu – Geirsgötu – Sæbraut, Ánanaust, Miklubraut og Hringbraut með frekari trafölum en þeim sem þegar hafa verið settir þar niður. Það mun þýða enn erfiðari og tafsamari flutninga og samgöngur við miðbæinn og við atvinnusvæðið mikla í Örfirisey þar sem eru þrjár stórar dagvöruverslanir, megin olíubirgðastöð landsins, mjög umfangsmikil iðnfyrirtæki, ein umfangsmesta sjávarútvegshöfn landsins ásamt fiskvinnslu og lýsisverksmiðju og svo söfn, verslanir, veitingahús og margt fleira. Í skipulagsáætlunum borgaryfirvalda á í engu að taka tillit til alls þessa né heldur til stórfelldrar íbúafjölgunar á þessu svæði. Þvert á móti á greinilega að spilla megin samgönguæðunum sem reyndar eru flestar stofnbrautir

líf og lífsgæði mikils fjölda fólks fyrirsjáanlega veruleg. Hvað vill FÍB? FÍB kallar eftir þjóðarátaki til að koma vegakerfinu aftur í viðunandi og sómasamlegt horf. Eitt af meginmarkmiðum FÍB allt frá því að félagið var stofnað fyrir 83 árum hefur verið góðar, öruggar og greiðar samgöngur fyrir alla um land allt. Góðar, fjölbreyttar, greiðar og hættulausar samgöngur - hreyfanleiki almennings - eru grundvallarþættir góðra samfélaga. FÍB er virkur aðili í FIA sem er alþjóðasamband bifreiðaeigendaog vegfarendafélaga. FIA leggur mikla áherslu á öryggi í umferð og á stóran þátt í þeim árangri sem náðst hefur undanfarin ár í því að fækka alvarlegum slysum í umferðinni. FIA leggur mikla áherslu á hreyfanleika allra (Mobility) og metur allar tegundir umferðar til jafns og telur það rétt hvers og eins að velja þann umferðarmáta sem best hentar hverju sinni. FÍB tekur heils hugar þátt í samstarfi um þessi markmið. Í þeim anda er það mat FÍB að það sé ekki boðlegt að kjörnir fulltrúar almennings vanræki sjálft æðakerfi samfélagsins, sem er vegaog samgöngukerfið. Það er heldur ekki boðlegt að þeir etji saman fólki eftir búsetu þess né etji saman mismunandi tegundum umferðar og leggi hindranir í veg einnar í því

Vanrækslan blasir hvarvetna við. Myndin var tekin í lok mars.

(þjóðvegir). Það mun framkalla enn meiri umferðartafir, tímaog fjármunatap, aukna mengun og slysahættu en þegar er orðið. Ennfremur verða áhrif á afkomu, 12

skyni að hygla annarri. FÍB er hins vegar ávallt tilbúið til samstarfs um góðar og skynsamlegar lausnir sem stuðla að greiðri, fjölbreyttri, öruggri, umhverfismildri, hagkvæmri

Geirsgata. Vatnið úr hjólförunum skvettist undan hjólum farartækjanna á gangstéttina meðfram Tollhúsinu og yfir þá sem þar eru á gangi.

Vatnið liggur í djúpum hjólförunum og skapar hættu sem versnar enn ef frýs.

og sjálfbærri umferð í þágu allra landsmanna. Í því sambandi skal á það minnt að FÍB hefur í gegn um alþjóðasamstarf sitt beinan aðgang að bestu sérfræðiþekkingu og kunnáttu í umferð og skipulagningu hennar og er tilbúið til þess hvenær sem er að miðla þeirri þekkingu til þeirra sem hafa tekið umferðarmál að sér fyrir hönd alls almennings. Loks skal á það bent að mörg erlend systurfélög FÍB eru upphaflega einhvers konar ferðaklúbbar m.a. reiðhjólaklúbbar, eins og t.d. hollenski klúbburinn ANWB. Hollendingar hafa lengi verið og eru mikil reiðhjólaþjóð og hafa þeir langa reynslu af því að skipuleggja samhliða umferð reiðhjóla, bíla og gangandi þannig að vel og árekstrarlaust fari saman. FÍB er hvenær sem er reiðubúið til að miðla þekkingu og kunnáttu systursamtaka sinna til þeirra sem stjórna samgöngumálum á Íslandi. Það er engin ástæða fyrir Íslendinga að vera eyða tíma, fjármunum og fyrirhöfn í það að reyna að „finna upp hjólið.“ Aðrir eru búnir að því fyrir löngu.


Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankinn býður fjármögnun við kaup á nýjum og notuðum bílum og ferðavögnum. Lánshlutfall getur verið allt að 80% af kaupvirði og lánstími allt að 7 ár. Viðskiptavinir Landsbankans njóta ætíð betri kjara. Skilmála og nánari upplýsingar má finna á landsbankinn.is eða hjá Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans í Borgartúni 33.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000

13


STEFNT AÐ 1.609 KM HRAÐA Á BÍL HEIMSMET Í HRAÐAKSTRI

-núverandi heimsmet frá 1997: 1.228 km á klst.

M

eð alþjóðlegri samvinnu ætla menn nú að setja land-hraðamet á ökutæki. Bíllinn sem á að slá öll fyrri hraðamet af þessu tagi og komast á þúsund mílna hraða eða 1.609 km á klst, nefnist Bloodhound. Sjálfur metaksturinn á að fara fram árið 2016. Bloodhound bíllinn er byggður í Bretlandi en knýbúnaðurinn kemur að miklum hluta frá Noregi. Verkefnið í heild snýst ekki bara um nýtt hraðamet, heldur er það að hluta til geimþróunarverkefni sem evrópska geimferðastofnunin ESA styrkir. ESA styrkir nefnilega hönnun og smíði nýrra eldflaugamótora sem eiga að sanna sig í þessum bíl. Þeir eiga nefnilega þegar fram líða stundir að knýja eldflaugar sem flytja eiga gervitungl á sporbraut umhverfis jörðina þegar fram líða stundir. Ætlunin er að skjóta þessum eldflaugum upp frá norsku eynni Andöya. Norska fyrirtækið NAMMO hefur unnið að þessum nýju eldflaugamótorum síðan árið 2010. Fyrir um ári, gengu Bloodhoundhraðametsmennirnir bresku til liðs við NAMMO og nú hefur sú samvinna

14

leitt til þess að þrír þessara mótora verða í Bloodhound bílnum til að knýja hann áfram upp í ofurhraðann 1.609 km á klst sem er vel rúmlega einn og hálfur hljóðhraði. Undanfarið hafa mótorarnir verið reynslukeyrðir með góðum árangri bæði í rannsóknastofu en einnig í eldflaugum. Það sem sérstakt er við þessa eldflaugamótora sem verða í Bloodhound bílnum er það að hægt er að slökkva á þeim og gangsetja síðan aftur. Það er gert með hjálp bensínbílvélar sem knýr dælur sem dæla eldsneyti inn á þá.

En það eru ekki bara eldflaugamótorarnir þrír sem verða í bílnum heldur verður líka Rolls-Royce EJ200 þotuhreyfill úr Typhoon orrustuþotu. Eldsneytið er blanda tveggja efna; annarsvegar vetnisperoxíðs sem þekkt er á hárgreiðslustofum sem aflitunarefni fyrir höfuðhár. Hitt meginefnið er hydroxyl-terminated polybutadiene sem eiginlega er fljótandi gervigúmmí. Það góða við þetta eldsneyti er að það er ekki sérstaklega rokgjarnt, tiltölulega ódýrt og ekki sérlega mengandi. Bílstjórinn sem mun aka bílnum við heimsmetstilraunina heitir Andy Green. Hann er handhafi núverandi heimsmets frá 1997 sem er 1.228 km á klst. Þegar hann ekur af stað verður hröðun bílsins þvílík að „lárétt“ líkamsþyngd hans verður 2,5-föld (2,5 g). Tilraunin verður gerð á sérstaklega gerðri braut í S. Afríku sem er 19 kílómetra löng. Tæknifyrirtækið NAMMO varð til árið 1998 þegar sænsk og finnsk vopnafyrirtæki voru sameinuð norska vopnaframleiðslufyrirtækinu Raufoss Ammunisjon. Hlutur Raufoss í nýja fyrirtækinu var 45% en síðan hefur norska ríkið eignast þann hlut. Sl. ár var velta NAMMO 3,7 milljarðar norskra króna.


Way of Life!

dynamo reykjaví k

FjórhjóladriFinn, sjálFskiptur og Fullur sjálFstrausts!

Suzuki er öflugur, fjórhjóladrifinn snillingur með ríkulegan staðalbúnað. Meðaleyðsla er aðeins 5,7 l/100km sjálfskiptur.

Fáðu nánari upplýsingar á suzuki.is

All-grip skapar aksturseiginleika í sérflokki. Komdu og prófaðu. Þú kemst alla leið!

Suzuki bílar hf. I Skeifunni 17 I Sími 568 15 5100


SUMARDEKKJAPRÓFUN „Græn“ og „svört“ dekk

Þ

að er hið þýska systurfélag FÍB; ADAC sem gert hefur sumardekkjakönnunina 2015 sem hér birtist. Niðurstöðurnar koma á óvart að því leyti að þær sýna talsverðan mun milli venjulegra dekkja og þeirra grænu, þeim síðarnefndu frekar í óhag. Ennfremur staðfestir hún umtalsverðan mun milli „grænu“ dekkjanna innbyrðis. Grænu dekkin draga nafn sitt af því að þau eiga að hafa mjög lága núningsmótstöðu. Það þýðir að bílarnir renna mun léttar á þeim og þar með lengra en þeir gera á venjulegum dekkjum. Færri hestöfl og þar með færri eldsneytislítra þarf þar með til að koma bílnum á ferð og til að viðhalda hraða hans. Þegar horft er á málið með umhverfisgleraugunum er þetta auðvitað hið besta mál, en dekk snúast bara um fleira, m.a. umferðaröryggi: Sýnin verður ekki alveg jafn björt þegar málið er skoðað með umferðaröryggisgleraugunum. Til þess að geta kallast „grænt“ og eldsneytissparnaðurinn raunverulegur þurfa dekkin að vera öðruvísi uppbyggð en þessi venjulegu „svörtu“ og annarskonar gúmmíblöndur þurfa að vera í þeim sem gjarnan eru harðari. Þetta þýðir að „grænu“ dekkin 16

eru gjarnan hávaðasamari í akstri. Og af því gúmmíið í þeim er harðara þá er líka hætta á að veggripið verði ekki eins gott í beygjum eða í hemlun, sérstaklega þegar bleyta er á vegunum. Þetta má líka lesa út úr könnuninni ef grannt er skoðað enda þótt sumum framleiðendum hafi vissulega tekist ágætlega upp. Sérstaklega er þessi munur áberandi hjá Continental í 16 tommu dekkjaflokknum. Þar er í þriðja sætinu Continental ContiPremiumContact 5 sem er venjulegt (svart) dekk og það er meðal þeirra bestu í öllum þáttum sem lúta að akstursöryggi og ágætt í akstri á votum vegi. Í „grænu“ þáttunum sem eru núningsmótstaða og veggnýr er dekkið hins vegar í meðallagi en í heildareinkunn fær dekkið 8,8 af tíu. En í 16 tommu flokknum er annað

Continental dekk. Það er „grænt“ og heitir ContiEcoContact 5. Heildareinkunn þess er einungis 5,2 og þar munar mestu um að það spjarar sig ekkert sérstaklega á þurrum vegi og alls ekki vel í bleytu en hins vegar prýðilega í „grænu“ þáttunum. Könnunin leiðir ennfremur í ljós að í besta falli getur fólk vænst þess að lækka eldsneytiskostnað sinn um fimm prósent með því að setja bílinn á „græn“ dekk miðað við grænustu fáanlegu dekkin á móti þeim minnst grænu eða „svörtustu“ sem hægt er að finna í könnuninni. Þættir eins og verðmunur éta auðveldlega upp ávinninginn af þessum framtíðar eldsneytissparnaði. En ef fólk er að leita að sparnarleið þá er bestu leiðina að finna í slitþoli hjólbarðanna. Því slitþolnara dekk, þeim mun meiri sparnaður þegar að endurnýjun


kemur. Slitþolnustu dekkin í þessari könnun munu líklega endast tvöfalt á við þau sem minnsta slitþolið hafa. En þótt sliþol „grænu“ dekkjanna sé oftar en ekki minna en þeirra „svörtu“ þá er það síður en svo algilt. Það staðfestist t.d. hjá bæði Michelin og Continental. Nánast enginn munur mældist á slitþoli „grænu“ og „svörtu“ dekkjanna frá þessum framleiðendum. Flest góð – sum afbragðsgóð Þessi könnun nær til flestra nýjustu og bestu gerða fólksbíla-sumardekkja á markaði í Evrópu. Niðurstöður eru birtar í tvennu lagi; annarsvegar fyrir smábíla og hins vegar meðalstóra og stóra fólksbíla. Smábíladekkin eru af stærðinni 185/60 R14 H. Stærri dekkin eru af stærð 205/55 R16 V. Þessir stærðarflokkar, sérstaklega sá stærri, eru lang algengastir í Evrópu allri að Íslandi meðtöldu. Í 14 tommu flokknum eru alls 16 tegundir dekkja. Sex þeirra stóðu sig mjög vel, átta reyndust í meðallagi sem þýðir að þau eru fyllilega viðundandi. Einungis tvö stóðust prófin með þeim hætti að ekki er þykir fært að mæla með kaupum á þeim.

Í flokki 16 tommu dekkjanna reyndust sömuleiðis sex dekk standa sig með ágætum en einungis eitt reyndist með þeim hætti að ekki er hægt að mæla með kaupum á því. 11 dekk eru með miðlungsmeðaleinkunn. Það þýðir að sum þeirra kunna að hafa mjög góða eiginleika á einstökum sviðum en síðri á öðrum. Það þýðir líka að leggja þarf á sig nokkra fyrirhöfn við að rýna í könnunin og bera saman niðurstöðurnar við sínar eigin ríkjandi akstursaðstæður ef mann langar sérstaklega mikið í eitt miðlungsdekkjanna. Einfaldara er þó kannski að velja bara eitthvert þeirra sex bestu, sérstaklega ef verðmunurinn er lítill eða enginn. Dekkin voru prófuð að venju í þeim tilgangi að meta afköst þeirra og getu við hemlun, hröðun og í beygjum á bæði þurrum og blautum vegum og brautum. Þá eru afköst þeirra við að ryðja vatni frá sér sérstaklega prófuð enda er það afar mikilvægur eiginleiki. Það er nefnilega lítt eftirsóknarvert að lenda í því að bíll fljóti upp eða „plani“ eins og hraðbátur. Við það verður hann nefnilega stjórnlaus. Góð vatnsþolin dekk eru ekkert síður

nauðsynleg á Íslandi en annarsstaðar. Á íslandi eru nefnilega djúp hjólför alltof algeng á vegum og götum sem full eru af vatni í rigningum. Að öðru leyti er slitþol dekkjanna mælt, sem og núningsmótstaða þeirra og veggnýr frá þeim. Núningsmótstaðan snýst um það hversu létt bíllinn rennur á dekkjunum. Þetta er oftast prófað með því að bíll er látinn renna niður skábretti niður á slétta hallalausa braut eða gólf og síðan mælt hversu langt hann rennur áður en hann stöðvast. Út frá mælingunum verður svo til formúla sem notuð er til að reikna úr hve mikið eldsneyti sparast miðað við það dekk sem styst rann. Þessi dekkjaprófun ADAC fór fram síðsumars 2014 og stóð fram á haustið. En ADAC stendur ekki eitt að þessari könnun því að fjölmörg systurfélaganna í Evrópu taka þátt í verkefninu og birta síðan niðurstöðurnar í félagsmiðlum sínum. 17


185/60 R14 H

Vægi

8,6 Sigurvegari

8,5 grænt dekk

8,4

Continental Conti PremiumContact 5

Goodyear EfficientGrip Nokian Line Performance

Öruggt og traustvekjandi í öllum prófunarflokkum. Mjög gott á þurrum vegi en best allra í bleytu.

Framúrskarandi sumardekk. Besta dekkið á þurrum vegi en einnig mjög gott í bleytu. Lág núningsmótstaða, en fremur hávært.

grænt dekk

Fyrirtaks sumardekk. Sérlega slitþolið, en fremur hávært.

7,0

6,8

6,8

Dunlop Sport Bluresponse

Vredestein Sportrac

Hankook Kinergy Eco K425

Ágætis sumardekk. Mjög gott á þurrum vegi og með lága núningsmótstöðu. Fremur hávært.

Gott sumardekk sem hefur góða eiginleika á þurrum vegi og er slitþolið.

Traust sumardekk. Engir sérstakir veikleikar. Ágætt á þurrum vegi og vel slitþolið.

5,4

5,2

grænt dekk

Þurr vegur Blautur vegur Veggnýr Eyðsla (núningsm.) Slitþol Verð 4 stk = 91.200 Verð 4 stk = 50.360

Verð án afsláttar

Verð án afsláttar

5,6 grænt dekk

5,4

5,4

Firestone Michelin Energy Firehawk TZ 300 a Saver+

Sava Intensa HP

Pirelli Cinturato P1 Verde

Infinity Ecosis

Yokohama BluEarth AE-01

Á heilina litið eru eiginleikarnir góðir að því undanskildu að í bleytu er dekkið einungis í meðallagi, sem dregur það niður.

Gott slitþol og lág núningsmótstaða. Eiginleikarnir á bæði þurrum og votum vegi draga dekkið niður.

Eiginleikar þessa dekks eru allir í meðallagi að því undanteknu að það hefur gott slitþol.

Að flestu leyti er þetta ágætis sumardekk nema að því leyti að núningsmótstaðan er talsverð.

Eiginleikarnir í flestum prófunarþáttum eru í meðallagi og ekki nógu afgerandi til að lyfta aðaleinkunninni.

Eiginlega er þetta ágætis dekk en þó með þeirri undantekningu að það þyrfti að vera betra í þeim mikilvæga þætti sem er bleytan.

5,0

5,0

3,0

2,0

GT Radial Champiro Eco

Semperit Comfort-Life 2

Kumho KH27 Ecowing E501

Matador MP 16

Í meðallagi gott í hinum þungvægu þáttum sem eru vortur og þurr vegur. Það er ergilegt þar sem dekkið er gott að öðru leyti.

Einstaklega slitþolið dekk og núningsmótstaðan sömuleiðis lág. Það nægir bara ekki til að vega upp á móti öðrum þáttum.

Núningsmótstaðan er mjög lág. Í bleytunni er það hins vegar ekki nógu traust og það dregu mikið niður.

Afleitt í bleytu og það skilar þessu dekki niður í neðsta sætið í þessari könnun.

Söluaðili Klettur

5,8

Vægi

Söluaðili Max 1 grænt dekk

Þurr vegur Blautur vegur Veggnýr Eyðsla (núningsm.) Slitþol

Vægi

Þurr vegur Blautur vegur Veggnýr Eyðsla (núningsm.) Slitþol

18

grænt dekk

grænt dekk


Skoðaðu dekkjaleitarvélina á

MAX1.is

VELDU ÖRYGGI Margverðlaunuð NOKIAN gæðadekk Á Íslandi vitum við að sumarveður getur þýtt alls konar veður. Þess vegna hefur Nokian þróað sumar- og heilsársdekk sem henta fjölbreyttu veðurfari norðlægra slóða. Mundu eftir

FÍB afslættinum ein öruggustu dekk sem völ er á valin bestu dekkin í gæðakönnunum eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla

Mundu: nagladekkin af fyrir 15. apríl

Greiðsludreifing í boði

Opnunartími: virka daga kl. 8-17. Laugardaga: sjá MAX1.is Bíldshöfða 5a, Rvk Jafnaseli 6, Rvk Dalshrauni 5, Hfj

Aðalsímanúmer

515 7190

Knarrarvogi 2, Rvk (ath. ekki dekkjaþjónusta)

19


205/55 R16 V 9,8

Vægi

Sigurvegari

8,8

grænt dekk

7,4

7,2

grænt dekk

6,8

grænt dekk

6,8

Michelin Primacy 3

Goodyear Efficient Continental Conti Dunlop Sport Grip Performance Premium Contact 5 BluResponse

Pirelli Cinturato P7 Blue

Bridgestone Turanza T001

Hér er bæði slitstyrkurinn og öryggið í fyrirrúmi. Sumardekk fyrir þá sem aka mikið við allskonar skilyrði og sigurvegari könnunarinnar.

Fyrirtaks sumardekk og það besta í bleytunni af dekkjunum í þessari könnun.

Prýðis sumardekk og það besta í þessari könnun á þurrum vegi. Ágætt einnig í bleytu.

Mjög jafngott í öllum prófunarþáttunum. Engir sérstakir veikleikar merkjanlegir.

Örugg í öllum akstursaðstæðum. Fremur hávært.

Gott dekki í öllum þáttum sem lúta að öryggi. Nokkuð hávært.

Þurr vegur Blautur vegur Veggnýr Eyðsla (núningsm.) Slitþol Verð 4 stk = 84.801 Verð án afsláttar

Söluaðili Klettur

Vægi

6,0

6,0

5,8

5,6

5,4

5,4

Fulda EcoControl HP

Hankook Ventus Prime2 K115

Semperit SpeedLife

Vredestein Sportrac 5

Falken Ziex ZE914

Nokian Line

Í meðallagi á bæði þurrum vegi sem og í bleytu. Gott slitþol nægir þó ekki til að lyfta því upp í hærri aðaleinkunn.

Gott á þurrum vegi en síðra í bleytunni. Núningsmótstaða mikil gerir þetta er eldsneytisfrekasta dekkið í þessari könnun. Það dregur það verulega niður.

Þetta dekk er í meðallagi í þeim þáttum sem mestu máli skipta. Því verður aðaleinkunnin ekki betri en hún er.

Mjög gott á þurrum vegi en síðra í bleytunni.

Afar lítið slitþol dregur dekkið mikið niður. Ennfremur eru bleytueiginleikar fremur slakir sem bætir heldur ekki úr skák.

Eiginlega er þetta ágætis dekki í flestum þáttum sem lúta að örygginu. Lítið slitþol dregur það niður.

Þurr vegur Blautur vegur Veggnýr Eyðsla (núningsm.) Slitþol Verð 4 stk = 94.438

Verð 4 stk = 62.740

Söluaðili BJB

Söluaðili Max 1

Verð án afsláttar

Vægi

Þurr vegur Blautur vegur Veggnýr Eyðsla (núningsm.) Slitþol

20

5,2 grænt dekk

5,2

Bridgestone Ecopia EP0015

Continental Michelin Energy ContiEcoContact 5 Saver+

Grunnt mynstur á slitfleti hefurþað í för með sér að dekkið spjarar sig ekki vel í bleytu. Þá er slitþolið lítið.

Þetta „græna“ dekk spjarar sig ekki vel í bleytu og stenst því enganveginn systurdekkinu PremiumContact 5, snúning.

grænt dekk

5,2

grænt dekk

Ágætir eiginleikar á þurrum vegi og mikið slitþol ná ekki að vega upp á móti rýrum árangri í bleytu.

5,0

Verð án afsláttar

5,0

2,0

Hankook Kinergy Eco K425

Kumho H551

Nankang Econex Eco-2 (Grenn/Sport)

Þetta „græna“ dekk er ekki frekt á eldsneytið. Aðrir eiginleikar þess eru því miður ekki í takti við það.

Gott á votum vegum. Slitþolið er hins vegar ekki mikið. En þetta er ódýrt dekk og getur svo sem nægt þeim sem ekki keyra mikið.

Stendur sig mjög illa í bleytu, svo illa að framleiðandinn hefur komið fram með annað dekk sem á að vera betra, en náði ekki inn í þessa prófun.

grænt dekk


LÁGMARKS

MYNSTURDÝPT má ekki vera grynnra en

1,6 mm

Dekkjamynstrið hefur mjög mikla þýðingu fyrir það hversu stöðugur bíllinn er í akstri, Hve vel hann svarar stýrinu, hversu vel hann hemlar og hversu vel dekkið ryður frá sér vatni á blautum vegum. Nú hafa nýjar reglur um lágmarks mynsturdýpt tekið gildi og er hún nú 1,6 mm (var áður 1,5 mm og þar áður 1,0 mm). Dekk eru nú ólögleg ef mynstrið er grynnra en 1,6 mm. Algengast er að mynsturdýpt nýrra sumarhjólbarða sé 7-8 millimetrar. Ágætt er auðvitað að mæla af og til mynsturdýptina þegar dekkin taka að slitna. Til eru sérstakir mælar til þess sem ágætt getur verið að hafa til taks í bílnum. Það er þó að mestu óþarft því að ofan í sjálfu mynstri flestra dekkja eru litlir gúmmíkubbar. Þegar mynstrið er orðið það slitið að þessir kubbar eru orðnir sléttir við yfirborð slitflatarins, er dekkið að verða eða orðið ólöglegt. Þessir kubbar eru sérstaklega merktir á hliðum

Prófunarþættir og vægi þeirra Ekið á þurrum vegi Heildarvægi 20% Akstur í beygjum 35% Beygt frá hindrun 35% Nauðhemlun 30% Ekið á blautum vegi Heildarvægi 40% Hemlun 30% Flotun á beinum vegi 20% Flotun í beygju 10% Rásfesta og aksturseiginleikar 30% Veggrip 10% Veggnýr Heildarvægi Vegdynur inni í bíl Vegdynur utan bíls

10% 50% 50%

Eldsneytiseyðsla/núningsmótstaða 10% Slitþol

dekkjanna með tákninu TWI (Tread wear indicator) Þar sem þetta tákn er að finna á hlið dekks er að finna svona slitkubba ofan í mynsturrásunum.

Hvað þýða áletranirnar? Sumardekkin í þessari könnun tilheyra sínum hvorum stærðarflokknum. Innan þeirra rúmast lang algengustu stærðirnar sem eru undir fólksbílum í Evrópu, sérstaklega þó 16 tommu flokkurinn. En auðvitað eru stærðar-

20%

flokkarnir miklu fleiri og óvinnandi vegur yrði að prófa þá alla. Því eru þeir algengustu látnir duga. Dekkin í minni flokknum eru öll af stærðinni 185/60 R14 H en í þeim stærri eru öll 205/55 R16 V. Fyrsta talan táknar breidd slitflatar dekksins í millimetrum. Hún er þannig í minni flokknum 185 mm. Önnur talan, 60, táknar að hæð dekkbelgsins frá felgubrún að slitfleti er 60% af breidd slitflatarins.

R þýðir að dekkið er radíaldekk og talan 14 þýðir að dekkið passar á felgu sem er 14 tommur í þvermál. Að síðustu kemur svo bókstafur sem táknar hraðaþol dekksins. Bókstafurinn H þýðir að dekkið þolir akstur á allt að 210 km hraða. Í stærri flokknum er síðasti stafurinn V. Hann þýðir að dekkin þola akstur á allt að 240 km hraða.

21


FYRSTA APRÍL-LÖG UM LITLAR RAFMAGNSVESPUR -hvorki skráningar- né tryggingaskyldar

N

ý umferðarlög tóku gildi 1. apríl sl. Í meðförum samgöngu- og umhverfisnefndar alþingis varð sú breyting á frumvarpi til laganna, að litlar rafmagnsvespur sem náð geta allt að 25 km hraða á klst. verða hvorki skráningar- né tryggingaskyldar. Ekki þarf heldur neinskonar hæfnis- eða þekkingarpróf í umferðarreglum á farartækin og allt niður í 13 ára börn mega aka þeim, ekki bara á göngu- og hjólreiðastígum, heldur einnig á götum og vegum þar sem hámarkshraði er allt að 90 km á klst. Að undanskilja léttu rafmagnsvespurnar skráningar- og tryggingaskyldu er þvert á umsagnir flestra eða allra þeirra sem gáfu samgöngunefnd þingsins álit og umsögn um málið. Það voru allt aðilar sem hingað til hafa talist marktækir í málum er varða umferðaröryggi, svo sem lögregla og fagráð innanríkisráðuneytisins um umferðaröryggi. Eva María Jónsdóttir formaður fagráðsins sagði í sjónvarpsfréttum 29. mars sl. að lögin með áorðnum breytingum samgöngunefndar þingsins væru mikil afturför sem ógnaði umferðaröryggi og að alþingi þyrfti að taka lögin til

22

endurskoðunar undireins. Rök samgöngunefndar alþingis fyrir því að leyfa notkun rafmagnsvespanna í almennri umferð á vegum voru m.a. þau að jafnsetja farartækin venjulegum fótstignum reiðhjólum sem mega vera í almennri umferð óháð hámarkshraða. Orðrétt segir í áliti samgöngunefndar: „Takmarkanir á notkun léttra bifhjóla í flokki I á þennan hátt er líklegt til að koma helst niður á notendum þeirra á landsbyggðinni þar sem notkun þeirra verður verulega takmörkuð en á sömu götum verður hins vegar leyfilegt að hjóla á reiðhjóli. Ljóst er að notkun bæði reiðhjóla og léttra bifhjóla í flokki I á götum og vegum þarfnast sérstakrar varúðar þar sem um hægfara tæki er að ræða. Á þeim er þó ekki slíkur munur að rétt sé að takmarka notkun léttra bifhjóla í flokki I með þeim hætti sem lagt er til í frumvarpinu.“ Samkvæmt 91. gr. umferðarlaga hefur verið skylt að vátryggja öll skráningarskyld vélknúin ökutæki. Vátryggingin nær til tjóns sem hlýst


af notkun ökutækjanna. Að auki skal ökumaður hvers vélknúins skráningarskylds ökutækis vera tryggður sérstakri slysatryggingu. En með nýju lögunum með áorðnum breytingum samgöngunefndar eru léttu bifhjólin í flokki 1 (rafmagnsvespurnar) nú undanþegin öllum tryggingum. Það réttlætir samgöngunefnd með þessum orðum: „Ljóst er að af vátryggingarskyldunni mun hljótast töluverður kostnaður fyrir eigendur slíkra bifhjóla og eru reglurnar því verulega íþyngjandi að þessu leyti. Að mati nefndarinnar er ekki þörf á því að kveða á um svo stranga vátryggingarskyldu, m.a. vegna þess að notkun léttra bifhjóla í flokki I er að mestu leyti lík notkun reiðhjóla, þau eru notuð á gangstéttum og göngustígum og ná mjög takmörkuðum hraða. Samfara þessu telur nefndin einnig rétt að um hjólin gildi sömu ábyrgðarreglur og um reiðhjól. Þannig gildi ekki hin stranga hlutlæga ábyrgð sem almennt gildir um skráningarskyld ökutæki. Forsenda

þeirrar ströngu ábyrgðar er að af notkun slíkra ökutækja getur hlotist mikið tjón ef óhapp verður. Líkt og að framan greinir telur nefndin þessi rök ekki eiga við um létt bifhjól í flokki I. Nefndin leggur því til breytingar þessu til samræmis en bendir jafnframt á að eigendur slíkra bifhjóla hafa frjálst val um að kaupa tryggingar fyrir hjólin og ökumenn þeirra af starfandi vátryggingafélögum.“ Tryggingafélögin íslensku hafa fram til þessa látið almenna heimilistryggingu ná til slysa og óhappa sem verða við notkun reiðhjóla hvort sem í hlut eiga börn eða fullorðið heimilisfólk. Hvort þau muni láta sér það lynda til lengdar að fella léttu bifhjólin í flokki 1 undir þessar tryggingar á tíminn hins vegar eftir að leiða í ljós. Það er óvissuþátturinn í þessu máli. Umtalsverður munur er nefnilega á reiðhjóli og vélknúnu farartæki sem léttu rafmagnsvespurnar vissulega eru.

Þá er þyngdarmunurinn verulegur: Venjulegt reiðhjól er einungis fáein kíló að þyngd er rafmagnsvespan með rafhlöðum , rafmótor, ljósum og öllum búnaði umtalsvert þyngri eða svo tugum kílóa skiptir. Ef t.d. 13 ára barn veldur alvarlegu slysi eða verður sjálft fyrir því og forráðamenn þess eru ekki með heimilistryggingu – hvað þá? Foreldrar eru ábyrgir fyrir börnum sínum og því tjóni sem þau kunna að valda og ef engin er heimilistryggingin, þá gæti það hæglega gerst að sótt yrði að foreldrum/forráðamönnum barnsins að greiða bætur vegna slyssins. Og ef barnið sjálft slasast er hugsanlegt að það verði ótryggt með öllu. En í slysatilfellum yfirleitt geta upphæðirnar numið gríðarlegum upphæðum og orðið venjulegu fólki gersamlega ofviða að standa undir. Óvissan er komin til að vera eftir gildistöku þessara 1. apríl-laga, svo mikið er víst.

7,2

Hagkvæm bílafjármögnun Við bjóðum kaupleigu og bílalán til að fjármagna bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Arion banka njóta hagstæðra kjara. Reiknivélin á arionbanki.is hjálpar þér að sjá hvaða fjármögnunarkostir henta þér. Hafðu samband í síma 444 8800 eða sendu fyrirspurn á bilar@arionbanki.is Nánari upplýsingar er að finna á arionbanki.is

23


ÓHÁÐUM BÍLAVERKSTÆÐUM GERT ERFITT FYRIR BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL

- tækniupplýsingar á ólæsilegu formi og allt of dýrar

E

f marka má evrópska úttekt á samkeppnisstöðu almennra óháðra bílaverkstæða samanborið við verkstæði sem eru á vegum bílaframleiðenda eða tengd þeim, hallar enn á þau óháðu. Þau eiga erfitt með að komast yfir nauðsynlegar tækniupplýsingar frá bílaframleiðendum á formi sem er læsilegt fyrir venjulegar tölvur og upplýsingarnar eru seldar of dýrt. Samtök evrópskra bílasölu- og bílaviðgerðaaðila, Cecra gerðu þessa könnun sl. sumar og verða niðurstöðurnar afhentar Evrópuráðinu með kröfu um skýrari reglur og viðurlög þegar í stað við samkeppnishindrunum af þessu tagi. Í þessum viðskiptum eigi að ríkja jafnræði og eðlileg samkeppni sem tryggi neytendum - bifreiðaeigendum góðar viðgerðir á sannvirði. Formaður og lögmaður sambands verkstæða innan sænska bílgreinasambandsins segja í samtali við Motormagasinet í Svíþjóð að könnunin staðfesti að ólöglegar

24

hindranir séu enn lagðar í veg óháðu bílaverkstæðanna þrátt fyrir að næstum fimm ár séu síðan það varð ólöglegt. –Ekki má lengur mismuna almennu bílaverkstæðunum. Öll verkstæði, bæði almenn og þau sem tengjast beint eða óbeint einstökum bílaframleiðendum eiga að geta keppt jafnfætis og þannig veitt víðtækari þjónustu á betra verði. En til að það geti orðið þarf samkeppni að vera virk í öllum þáttum bílgreinarinnar, segir formaður sænska verkstæðasambandsins.

Alls tóku rúmlega tvö þúsund óháð verkstæði í 11 Evrópulöndum þátt í könnuninni, þar af 61 í Svíþjóð. Niðurstaðan sýnir greinilega að enn er hindrunum beitt gegn verkstæðum og einstökum bifvélavirkjum til að hindra að þeir komist yfir réttar rafrænar tækniupplýsingar sem þeir þarfnast til að geta lagfært bíla. Hindranirnar eru gjarnan þær að upplýsingarnar eru forritaðar þannig að þær eru ólæsilegar í venjulegum tölvum eða verðlagðar svo hátt að kaup á þeim í læsilegu formi er ofviða venjulegum almennum verkstæðum eða einyrkjum. Á þessu verði Evrópusambandið að ráða bót og tryggja öllum viðgerðaaðilum aðgang að upplýsingunum, enda séu þær í rauninni eign bíleigendanna og hluti þess sem neytandinn keypti þegar hann festi kaup á bílnum. Viðgerðaaðilar eigi að geta nálgast upplýsingarnar sem víðast og ekki bara hjá framleiðanda eða umboðsaðila hans heldur líka frá stórum tölvu- og hugbúnaðarframleiðendum eins og Bosch, Delphi o.fl.


Bílskúrshurðir fyrir íslenskar aðstæður Héðinshurðir eru glæsilegar og endingargóðar bílskúrshurðir sem hafa sannað sig í rysjóttu íslensku veðurfari. Gerðar úr galvanhúðuðu stáli með þykkri einangrun, þola mikið vindálag og kulda. Fyrsta flokks viðhalds- og varahlutaþjónusta. Ítarlegar leiðbeiningar um uppsetningu fylgja.

Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is

ALLAR ALMENNAR BÍLAVIÐGERÐIR TRI NÝ OG BE TA ÞJÓNUS

LOSUM SPÍSSA!

Skiptum um tímareimar, hjólalegur, spindilkúlur, stýrisenda og bremsubúnað. Gírkassa- og vélaviðgerðir. Yfirförum og gerum við. Færum í skoðun sé þess óskað. Fljót og góð þjónusta!

Getum tjakkað spíssa úr mörgum gerðum bíla án þessa að taka heddin af. Getum borað spíssa úr 2.0L Renault, Nissan og Opel ef spíss slitnar. Eigum rafmagnstengi fyrir spíssa og tveggja til sex pinna skynjara.

Mekka

BIFREIÐAVERKSTÆÐI GARÐABÆJAR

Smiðsbúð 2 210 Garðabæ Sími 577 6670 mbvg@mbvg.is www.mbvg.is

25


NÝR VETTVANGUR

BÍLAVIÐSKIPTA Á NETINU

M

eð tilkomu nýrrar vefsíðu, Sjálfsalinn.is, hefur seljendum og kaupendum farartækja verið gert kleift að stunda milliliðalaus bílaviðskipti. Vefurinn byggir á öflugri leitarvél þar sem kaupendur geta leitað rétta bílsins og haft samband við seljanda hans.

farartækja kostur á að auglýsa gegn föstu gjaldi mánaðar skráningu, sem tryggir að auglýstir bílar eru raunverulega til sölu og skráningarupplýsingar eru ávallt nýlegar.

Um áratuga skeið hafa einstaklingar auglýst bíla sína til sölu í smáauglýsingum prentmiðla og á einstökum vefmiðlum en skortur hefur verið á flokkun eða leit út frá ákveðnum gerðum eða bílategundum, auk þess sem áragamlar skráningar hafa hangið inni á vefmiðlum.

Sjálfsalinn.is er fyrir alla og var það meginmarkmið við uppsetningu hans að notendaviðmót væri eins einfalt og kostur er. Fyrir seljendur er nóg að skrá fastanúmer ökutækis og í kjölfarið sækir vefurinn allar grunnupplýsingar um farartækið í miðlægan gagnagrunn Samgöngustofu þannig að eigandi þarf aðeins að bæta við upplýsingum á borð við aukabúnað, akstur og verð.

Á Sjálfsalinn.is gefst seljendum

Ávallt er aðgengi að auglýsingunni

til að breyta upplýsingum á meðan hún er virk. Auk þess að geta sett inn myndir af ökutækinu er líka hægt að setja inn myndband fyrir hugsanlega kaupendur. Fyrir kaupendur er Sjálfsalinn.is öflug leitarvél sem gerir þeim kleift að leita draumabílsins út frá nafni framleiðanda og gerð bíls og þrengt svo leitina eftir ýmsum leitarskilyrðum. Kaupendur geta einnig skoðað upplýsingar úr Ökutækjaskrá og frá seljanda, keypt ferilsskrá ökutækja, skoðað myndir af bílnum og haft samband við seljanda með síma eða tölvupóst. Þá geta kaupendur og seljendur gengið frá eigendaskiptum með rafrænum hætti í gegnum vefinn. Aðstandendur síðunnar eru þeir Gunnar Gunnarsson og Stefán Þór Sigfússon, fyrrum skólafélagar við Háskólann á Bifröst sem fannst vanta góðan vettvang milliliðalausra bílaviðskipta.

26


FUNDUR SJÓVÁR UM

TJÓNABÍLA Vilji til úrbóta

FÍB og ýmsir fleiri hafa um langt skeið gert alvarlegar athugasemdir við þau lausatök sem viðgengist hafa málum sem snerta tjónabíla, skráningu þeirra og viðgerðir. Gagnrýnt hefur verið að tryggingafélög sem leyst hafa til sín bíla eftirÓTRÚLEGT tjón, selji þá í útboðum. VÍ AÐ LÍFIÐ ER Margir þessara bíla hafa síðan verið gerðir upp af vankunnáttu og með handarbaksvinnubrögðum og seldir grunlausum kaupendum sem svo vakna upp við þann vonda draum að hafa keypt köttinn í sekknum.

þessi mál upp og lýsir eftir betra fyrirkomulagi þessara mála.

Þá hafa lausatök á skráningu tjónabíla í bifreiðaskrá verið gagnrýnd sem og linkind tjónaskoðunarfólks og lögreglu við skrá skemmda bíla sem tjónabíla. Allt var þetta til umræðu á morgunverðarfundi sem tryggingafélagið Sjóvá gekkst nýlega fyrir. Það er fagnaðarefni að það sé einmitt tryggingafélag sem nú tekur

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB benti á það á fundinum að núverandi regluverk um tjónabíla væri í grunninn frá 2001. Það hefði á sínum tíma verið mikið framfaraspor en kominn væri tími til að fara rækilega yfir ferlið og endurskoða hvað betur má fara. Skilgreina þurfi betur kröfur til þeirra sem eiga að tilkynna um

ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ

tjónabifreiðar og endurmeta eigi þær eftir viðgerðir. Þá sé það gagnrýnivert að engar kröfur séu nú gerðar til þeirra sem kaupa skemmda bíla í útboðum tryggingafélaganna. Dæmi séu síðan um að þessir bílar séu seldir grunlausum kaupendum sem síðan komast að raun um að þeir eru í ófullnægjandi ástandi eftir fúskviðgerð.

27


SPARNEYTNUSTU OG ÖRUGGUSTU BÍLARNIR

-árlegur listi sænska tryggingafélagsins Folksam

S

ænska tryggingafélagið Folksam birtir árlega lista yfir þá bíla sem standast öryggiskröfur sem félagið gerir til bíla og eru jafnframt þeir sparneytnustu hver í sínum stærðarflokki. Folksam hefur um langt árabil rannsakað öryggi bíla frá flestum sjónarhornum, þeirra á meðal raunverulegum slysum, meiðsla-og dánartíðni í þeim sem og tíðni slysa miðað við ekna kílómetra. Þessar rannsóknir Folksam hafa í áranna rás leitt í ljós að sumum tegundum og gerðum bíla er hættara við tilteknum tegundum slysa en öðrum. En til að bílar yfirleitt komi til greina í þessari árlegu rannsókn á því hversu öruggir bílarnir eru, er núverandi viðmiðun sú að bíll þarf að hafa náð minnst 40 prósentum þeirra öryggisstiga sem bílar geta hugsanlega hlotið hjá Euro NCAP fyrir vernd fótgangandi og 88 prósent þeirra stiga sem gefin eru fyrir vernd fólksins í bílnum. Í ofanálag skulu bílarnir vera minnst 30 prósent yfir öryggismeðaltali félagsins sem byggt er á eigin slysarannsóknum Folksam. Í töflunni hér til hliðar má lesa hvaða 13 nýju bílar það eru sem að mati Folksam eru bæði öruggastir og sparneytnastir:

28

Eldsn. Stærðarfl.

Tegund og gerð

l/100 km

Smábíll

Toyota Yaris 1,5 VVT-I tvinnbíll

75

3,3

Smábíll

Ford Fiesta 1,6 TDCi 95 Econetic

87

3,3

Minni meðalstærð

Peugeot 308 1,6 BLUE HDI

82

3,1

Minni meðalstærð

Renault Clio 1,5 DCI 90

83

3,2

Meðalstærð

Skoda Octavia 1,6 TDI Greenline

85

3,3

Meðalstærð

Volvo V40 2,0 D4 190

94

3,6

Stór fólksbíll

Ford Mondeo 1,6 TDCi 115 hö. Econetic M6

99

3,7

Stór fólksbíll

Opel Insignia 2.0 CDTi 103 kW S/S

99

3,8

Stór fólksbíll

Volvo S60 2.0 D4 181

109

4,1

Minni fjölnotabíll Opel Zafira Tourer 1.6 CDTi Ecoflex S/S

105

4,0

Stærri fjölnotabíll

Citroen Grand C4 Picasso 1.6 E-HDi 115

117

4,5

Stærri fjölnotabíll

Citroen Grand C4 Picasso 2.0 E-Hdi 150 Aut6

117

4,5

Jeppi/jepplingur

Volvo XC60 2.0 D4 181


Númer 1 í Þýskalandi

Liqui Moly hefur verið valið í fjórum sjálfstæðum könnunum í Þýskalandi, besta vörumerkið í olíuvörum fyrir bíla. Nútíma vélar þurfa bestu smurog hreinsiefnin til þess hámarka nýtinguna á eldsneytinu og lágmarka mengandi útblástur samkvæmt ríkjandi mengunarstöðlum. Liqui Moly sérhæfir sig í efnavörum fyrir bíla og framleiðir öll smurefni samkvæmt stöðlum bílaframleiðenda. Notaðu Liqui Moly efnavörur og þú hámarkar virkni vélarinnar en lágmarkar eyðsluna.

Er ekki kominn tími til að nota Liqui Moly á bílinn þinn?

29

Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is


,,ÞÚ TRYGGIR EKKI EFTIRÁ” - skoðaðu rækilega bílinn sem þú hyggst kaupa!

M

jög mörg þeirra mála sem koma á borð tækni- og lögfræðiráðgjafa FÍB tengjast viðskiptum með notaða bíla. Oftast eru þessi mál þannig vaxin að keyptur hefur verið bíll sem síðan ekki stenst þær væntingar sem til hans voru gerðar. Bíllinn reynist vera ryðgaður, bremsurnar eru ekki góðar, það er hlaup í stýrinu, í sjálfskiptingunni og vélin brennir olíu os.frv. Þegar kaupandinn er svo spurður hvort eða hversu vel hann hafi skoðað bílinn áður en gengið var frá kaupunum kemur í ljós að sú athugun var oft á tíðum afar yfirborðskennd. Það er því miður allt of algengt að fólk í bílahugleiðingum „langi í“ einhvern bíl og vilji bara eignast hann. Þegar slíkt ástar-hugarástand er uppi getur skynsemin átt erfitt uppdráttar. Látið er hjá líða að skoða bílinn sómasamlega, fá hann ástandsskoðaðan og/eða að fá einhvern sem vel þekkir til bíla í lið með sér að líta á bílinn áður en kaupin eru gerð. Eftir að kaupsamningar hafa verið undirritaðir og eigendaskipti átt sér stað er einfaldlega of seint að gera athugasemdir við ýmislegt sem tengist aldri bíls, notkun hans og meðferð, nema þá að hreinlega hafi verið logið til um ástand bílsins – að seljandi hafi leynt kaupanda vísvitandi 30

upplýsingum um atriði sem skiptu máli.

Er framrúðan órispuð, ósprungin og laus við skemmdir eftir grjótkast?

FÍB vill minna alla í bílakaupahugleiðingum á að bíll er bara einkonar heimilistæki. Notaðir bílar sem hafa verið vel hirtir og vel haldið við, eru líklegri til að duga manni betur en þeir sem hafa verið vanhirtir. Bílar sem skemmst hafa í slysum og óhöppum eru sérstaklega varasamir vegna þeirra lausataka sem lengstum hafa viðgengist í málum sem lúta að tjónabílum, skráningu þeirra, eftirliti með viðgerðum á þeim o.s.frv. Það hefur leitt til þess að fólk hefur slysast til að kaupa slíka bíla og reynast fljótlega hafa keypt köttinn í sekknum.

Ef rispur, sprungur og holur sjást í sjónsviði ökumanns er rúðan ólögleg og verður að skipta um hana.

En hvað á fólk að gera þegar það er í bílahugleiðingum? FÍB hefur tekið saman tékklista sem gott er að hafa við hendina við fyrstu skoðun notaðs bíls sem til greina kemur að kaupa. Hann er svona:

Tékklisti fyrir notaða bíla Hefur bílnum verið haldið sæmilega við? Hvernig er lakkið? Rispur, dældir og beyglur, litarmunur

Eru ökuljósin í lagi? Eru gler ósprungin og óbrotin og speglar í aðalljósum í lagi. Gler í aðalljósum verða að vera heil og gagnsæ og speglar í aðalljósum ótærðir. Virka öll ljós og flautan eðlilega? Kviknar á öllum ökuljósum bæði að aftan og framan? Er flautan í lagi? Opnast og lokast allar dyr, vélarhlíf og skottlok áreynslulaust? Ef ekki og ef dyr, húdd og skottlok sitja skakkt í fölsunum, getur það verið merki um að bíllinn sé viðgerður eftir tjón. Eru hjólbarðar jafn- eða misslitnir? Mynsturdýpt hjólbarða skal vera a.m.k. 1,6 mm til að þeir teljist löglegir. Misslitnir hjólbarðar á sama ási geta verið merki um slit í hjóla- og stýrisbúnaði en í versta falli um að bíllinn hafi orðið fyrir tjóni.


Er pústkerfið þétt? Lekur olía úr vél eða gírkassa? Mældu olíustöðuna sem og stöðuna á kælivökva og hemlavökva þegar vélin er köld. Ef staðan á þessum vökvum er lág, getur það verið vísbending um alvarlegar bilanir og dýrar viðgerðir. Er rafgeymir hreinn og engar gráar útfellingar á pólunum sýnilegar? Heldur bíllinn vatni? Kannaðu hvort raki er í gólfi farþegarýmisins og í farangursgeymslunni. Kíktu undir motturnar. Athugaðu þetta aftur eftir að hafa reynsluekið bílnum. Ryð? Sjást ryðblettir á yfirbyggingunni – athugaðu sérstaklega undir hurðum, brettaköntum og í dyrafölsum. Líttu líka undir bílinn.

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 3 - 2 5 2 9

Eru öryggisbeltin í lagi og engar skemmdir sjáanlegar á þeim?

Eru hnakkapúðarnir tryggilega fastir og óskemmdir?

Virkar kúplingin hljóðlaust og án þess að „snuða“ eða rykkja.

REYNSLUAKSTUR

Gengur bíllinn létt og hljóðalaust í alla gíra í akstri? (beinskiptur bíll).

Fer vélin eðlilega í gang? Athugaðu hvort vélin er heit. Verið getur að heit vél geti dulið erfiða kaldræsingu og óeðlileg hljóð í og eftir ræsingu. Virkar stöðuhemillinn? Virka allir mælar og viðvörunarljós? Virkar allur búnaður? Rafmagns-rúðuvindur, samlæsing, , loftkæling, sóllúga, hliðarspeglar, afturrúðuhitari, sætahitarar o.fl. Eru vélin laus við óeðlileg hljóð í akstri og í lausagangi? Heyrist bank frá vélinni, málmskrölt eða glamur? Heldur bíllinn stefnu á sléttum og beinum vegi?

Skiptir sjálfskiptingin um gíra án rykkja og hljóðlaust? Hemlarnir? Fer hemlafetillinn meira en hálfa leiðina í gólfið áður en hemlarnir grípa? Breytir bíllinn um stefnu þegar hemlað er? Finnst titringur eða skjálfti í bílnum í akstri? Virkar miðstöð, loftræsting og miðsstöðvarblásari? Við mælum eindregið með því að fólk gangi aldrei frá kaupum á notuðum bíl fyrr en búið er að fara með hann í ástandsskoðun. Tékklistinn er hugsaður sem fyrsta skoðun. Ýmsir ágallar geta dulist þrátt fyrir að samviskusamlega sé farið eftir listanum og komið svo í ljós síðar þegar kaup eru um garð gengin.

2TÍM4A

A TJÓNN USTA ÞJÓ

AF ÞVÍ AÐ LÍFIÐ ER ÓTRÚLEGT ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ

31


Löglegur og vottaður sem bæði vetrar- og sumardekk:

BÍLAPRÓFUN FÍB NÝ TÆKNI

NÝR BYLTINGARKENNDUR HJÓLBARÐI

M

ichelin kynnti þann 2. mars í tengslum við bílasýninguna í Genf nýjan byltingarkenndan hjólbarða sem er jafnvígur í bæði vetrar- sem sumarfæri. CrossClimate kallast þetta dekk og er hið fyrsta nokkru sinni sem uppfyllir kröfur og væntingar sem gerðar eru til bæði sumar-og vetrardekkja. Það er bæði gúmmíblandan í slitfletinum en líka mynstrið sem samkvæmt lýsingum framleiðandans, Michelin, sem gerir gæfumuninn. Mynstrið er að hluta V-lagað og hárfínt en að öðru leyti eru raufar og holrúm sem sagt er að virki sem klær sem krafsa í vegyfirborðið þegar ísing er á því. Í þessu öllu saman er galdurinn sagður fólginn og dekkið semsé stenst vottunarkröfur sem gerðar eru til bæði vetrar- og sumardekkja. Það hlýtur að teljast þó nokkur tíðindi að fram sé komið dekk sem er nokkurnveginn jafnvígt á sumar- og vetrarakstursaðstæður. Það hefur nefnilega verið hingað til verið talið afar flókið og illmögulegt að sameina góða vetrar- og sumareiginleika í einu og sama dekkinu. Michelin, sem á sínum tíma fann upp radíalhjólbarðann og hefur alla tíð verið í fremstu röð dekkjaframleiðenda, fullyrðir að þetta hafi nú tekist með góðum árangri og 32

það hljóta að teljast nokkuð merkileg tíðindi. Tækni- og fræðimenn Michelin hafa unnið að þessu nýja CrossClimate dekki með mikilli leynd sl. tæp tvö ár og ekkert hefur spurst út um tilraunirnar fyrr en nú. Það verður spennandi að sjá næstu óháðu sumarog vetrardekkjakannanirnar og hvernig þetta nýja dekki mun standa sig. Af hálfu Michelin er fullyrt að nýja dekkið sé að öllu leyti jafnfætis öðrum hágæðahjólbörðum fyrirtækisins hvað varðar endingu, aksturseiginleika, öryggi og hagkvæmni. Bílablaðamönnum gafst kostur á að aka VW Golf bílum bæði á vegum og á lokuðum brautum og hafa margir

þeirra sagt að dekkið hafi komið á óvart með hversu vel það stóð sig við misjafnar aðstæður.


BÍLNÚMERUM STOLIÐ

Þ

-þrengslaskattar juku þjófnaðartíðnina í Svíþjóð jófnaður á númeraplötum bíla er orðinn að verulegum vanda á meginlandi Evrópu. Þar er númeraplötum stolið til að fela slóðir manna sem stunda viðskipti með stolna bíla, ýmsan varning og jafnvel mansal milli ríkja. Hér á landi er vandamálið nokkurt, en þar sem Ísland er eyja, felst vandinn einna mest í því að auðnuleysingjar stela númeraplötum af bílum til að skrúfa á aðra bíla í því skyni að dylja slóð sína við smærri lögbrot eins og bíla- og bensínþjófnað, innbrot og slíkt. Stolnar númeraplötur geta bakað eigendunum margvíslegan vanda eins og þann að allt í einu getur fólk þurft að fara að verjast kröfum um sektargreiðslur fyrir að það vanti númersplötu á bílinn eða þá kröfum

vegna umferðar- og stöðubrota eða fyrir eldsneytisþjófnaði sem einhverjir allt aðrir hafa framið. Þá tekur það bæði tíma og kostar fyrirhöfn að fá nýjar númeraplötur og í mörgum ríkjum má alls ekki hreyfa bílinn meðan hann er númerslaus og bráðabirgðanúmer liggja hreint ekki á lausu hjá yfirvöldum. Sænskt upplýsingafyrirtæki, autobutler.se, sem sérhæft er í upplýsingum um bílaverkstæði og bílaviðgerðir segir lausn vandans ósköp einfaldlega felast í því að setja ný lög sem gera það skylt að festa númeraplöturnar tryggilega við bílinn þannig að meira þurfi til að taka þær af bílum en bara að opna litla plastsmellu og taka plöturnar síðan úr plastramma. Þjófnaður á plötum verði mun erfiðari. Ef númeraplötum hefur verið stolið af bíl er nauðsynlegt

að tilkynna það strax. Við það verður staða eigandans gagnvart alls kyns kröfum og misskilningi allt önnur en ef hann lætur hjá líða að tilkynna stuldinn. Í Svíþjóð einni var í febrúar sl. tilkynnt um þjófnað á númeraplötum af 32 480 bílum. Í ágúst 2013 var númerum af 17.553 bílum stolið. Það þýðir að þessir þjófnaðir hafa aukist um 54 prósent á einungis 18 mánuðum. Hlutfallslega flestir þjófnaðirnir eiga sér stað í höfuðborginni Stokkhólmi eða 10. 090 í fyrra. Athygli vekur að eftir að sérstakur þrengslaskattur var lagður á umferð bíla í miðborgum Stokkhólms og Gautaborgar að viðlögðum sektum fyrir að hunsa skattinn, jukust númerastuldir mjög, sérstaklega í Gautaborg.

33


NÝ AFSTAÐIÐ LANDSÞING FÍB - SKORAÐ Á STJÓRNVÖLD AÐ SPJARA SIG

L

andsþing Félags íslenskra bifreiðaeigenda var haldið laugardaginn 7. mars nk. Steinþór Jónsson í Reykjanesbæ var endurkjörinn formaður félagsins. Auk hans eru þessir aðalfulltrúar í stjórn nú: Ingigerður Karlsdóttir Kópavogi, Kristín Sigurðardóttir Reykjavík, Ólafur Kr. Guðmundsson Reykjavík og Viggó Helgi Viggósson Reykjanesbæ. Varafulltrúar í stjórn eru Ástríður H. Sigurðardóttir Reykjanesbæ, Bragi Þorsteinn Bragason Garðabæ og Jóhann Grétar Einarsson Seyðisfirði. Á landsþinginu var samþykkt ályktun um að hvetja innanríkisráðherra til að fela Neytendastofu að hefja rannsókn á iðgjöldum ökutækjatrygginga. Hún er svohljóðandi: „Hvatning til innanríkisráðherra Landsþing FÍB 2015 hvetur innanríkisráðherra til að fela Neytendastofu að hefja rannsókn á iðgjöldum ökutækjatrygginga. Alla jafna ætti slík rannsókn heima hjá Fjármálaeftirlitinu (FME) en sú stofnun er í mjög óeðlilegri stöðu. FME á að tryggja að tryggingafélögin séu fjárhagslega burðug til að mæta áföllum en jafnframt á stofnunin að sjá til þess að ekki sé verið að innheimta of há iðgjöld af lögbundnum tryggingum. Fyrra hlutverkið virðist vega þyngra en það síðara hjá FME. FÍB telur eðlilegt að svona rannsókn sé framkvæmd af Neytendastofu enda snertir þetta hagsmuni neytenda. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,81% yfir árið 2014. Á sama tíma hækkuðu iðgjöld ábyrgðartrygginga ökutækja um 4,28% og iðgjöld kaskótrygginga um 1,62%. Í byrjun árs 2015 lækkaði kostnaður tryggingafélaganna vegna ökutækjatjóna, þar sem 15% vörugjald af innfluttum varahlutum var aflagt um áramót og virðisaukaskattur á viðgerðarvinnu, varahluti og nýja bíla

34

lækkaði um tæp 6%. Ekkert bendir til að tryggingafélögin hafi tekið tillit til þessarar kostnaðarlækkunar við útgáfu iðgjalda í byrjun ársins 2015. Ekki þarf að hafa mörg orð um áhrif þess þegar afnám vörugjalda og lækkun virðisaukaskatts skilar sér ekki til neytenda. Þessum breytingum er ætlað að vega upp á móti hækkun í neðra þrepi virðisaukaskattsins. Tryggingaiðgjöld vega einnig þungt í vísitölu verðtryggingar. Af þessum ástæðum er mikilvægt að ítarleg rannsókn fari fram sem fyrst á iðgjöldum ökutækjatrygginga hér á landi.” Ennfremur var samþykkt svohljóðandi áskorun til stjórnvalda um þjóðarátak gegn niðurbroti vega: „Áskorun til stjórnvalda um þjóðarátak gegn niðurbroti vega Ástand vega og gatna er mjög lélegt um þessar mundir. Á höfuðborgarsvæðinu þar sem umferð er mest á landinu og á helstu þjóðleiðum

utan þess hafa djúp hjólför fengið að myndast í yfirborð vega og gatna og lítið verið gert til úrbóta. FÍB hefur ítrekað varað við þessu ástandi sem er bæði varasamt og háskalegt. Sparnaður og niðurskurður í viðhaldi og nýbyggingum vega er farinn að kosta bíleigendur, fyrirtæki og samfélagið í heild verulega fjármuni. Þetta ástand eykur mjög hættu á slysum, meiðslum og manntjóni. Slæmir vegir auka kostnað við viðgerðir og viðhald bíla, jafnframt aukast tafir og óþægindi vegfarenda. Um land allt hefur verið sparað svo í viðhaldi gatna hjá ríki og sveitarfélögum undanfarin ár að stórsér á vegakerfinu. Ef fram heldur sem horfir brotna þjóðvegir niður. Kostnaðurinn við endurnýjun margfaldast ef viðhaldsleysið leiðir af sér það alvarlegt niðurbrot á yfirborðsslitlaginu að það brotnar og rofnar þannig að niðurbrotið nær einnig að skemma undirlagið.”


JEPPADEKK Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er

12v 0,8A

12v 5,5A

Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900

www.arctictrucks.is

Untitled-2 1

10.10.2014 16:10:53

35


BÍLAPRÓFUN FÍB BÍLASAGAN

KAPPAKSTUR MEÐ ÁHANGANDA

W

illy Messerschmitt hannaði orustuflugvélar í síðari heimsstyrjöld. Eftir Nürnberg-réttarhöldin og stutta tukthúsvist sneri hann sér að smíði öllu jarðbundnari farartækja, þriggja hjóla smábíla (eða yfirbyggðra mótorhjóla, eftir því hvernig á það er litið). Annað þýskt fyrirtæki, DaimlerBenz AG, sem á valdatíma Adolfs heitins Hitlers smíðaði meðal annars vélar í orustuflugvélar Messerschmitts, framleiddi um skeið eftir stríðið kappaksturs- og sportbíla, sem eins og T-Fordbílar fyrr á öldinni fengust aðeins í einum lit, í þessu tilviki málmgljáandi silfurlit, og tóku af litnum heitið Silberpfeil eða Silfurpílan. Og þá kemur sagan, trúlega ótengd veruleikanum: Eigandi bilaðs Messerschmitt-þríhjóls stendur við vegbrún hraðbrautar í Þýskalandi. Greiðvikinn vegfarandi stöðvar Silfurpílu sína, tekur fram dráttartaug og býðst til að draga vagninn á næsta verkstæði. Eigandinn tekur boðinu með þökkum og brátt 36

Me

hefst stillilegur björgunarleiðangur, Þangað til önnur Mercedes-Benz Silfurpíla þýtur hjá. Keppniskapið vaknar hjá dráttar-silfurpílueigandanum, sem steingleymir viðhenginu, stígur bensínið í botn og hyggst sýna félaga sínum og heiminum, hvernig Silfurpíla leiki í höndum kunnáttumanns. Hefst nú æðislegur kappakstur á hraðbrautinni. Ökumaður þríhjólsins þeytir flautuna í örvæntingu, en árangurslaust. – Afgreiðslumaður á bensínstöð við veginn sér þrennuna þeysast hjá og hringir í félaga sinn

KR175 á bensínafgreiðslu lengra upp með átóbananum: „Líttu nú út á veginn. Þá muntu brátt sjá skondna sjón. Fremst fer MercedesSilfurpíla á roknaspani. Svo kemur önnur Píla á sömu ferð. Aftast er svo Messerschmitt-þríhjólavagn og flautar í sífellu – en þeir hleypa honum ekki framúr! Örnólfur Thorlacius tók saman


EITUREFNI FINNST Í BARNABÍLSTÓL

-sala á stólnum bönnuð í Danmörku

E

iturefni sem kallast phtalate hefur fundist í barnabílstólnum Concord Ultimax 2 í Danmörku. Dönsk yfirvöld hafa af þessum sökum bannað sölu á stólnum í Danmörku og ráðlagt þeim sem þegar hafa keypt stólinn, að skila honum inn og krefjast endurgreiðslu. Efnið fannst í skyndiathugun heilbrigðiseftirlits. Phtalate er talið vera krabbameinsvaldur. Sú meginkrafa sem er gert til barnabílstóla er að þeir verndi barnið í bílnum ef slys verður. En það eitt er ekki nóg. Heilsu- og umhverfisspillandi efni eiga heldur ekki að vera til staðar í þessum öryggisbúnaði. Phalate efnið greindist MercedesíBenz 300 öryggisbelti stólsins og var sala á honum þegar í stað bönnuð. Luise Mai Cordsen lögfræðingur hjá FDM, systurfélagi FÍB í Danmörku, segir að þetta atvik staðfesti að jafnt og stöðugt eftirlit og endurteknar prófanir og sýnatökur sé ennþá nauðsynlegt. Vel geti nefnilega verið að þótt búið sé áður að rannsaka og prófa barnastól og staðfesta að hann standist kröfur, þá geti ýmislegt breyst eftir það. Vera

kann til dæmis að framleiðandi skipti um undirframleiðanda einhverra hluta stólsins og eftir það komi fram óæskileg og varasöm efni í stólunum. Í umræddri athugun og sýnatöku reyndist þessi eini innihalda phtalate af þeim stólum sem athugaðir voru. En þar sem ekkert raðnúmer er á Concord Ultimax 2 stólunum er ómögulegt að rekja efnið til tiltekinnar númeraseríu. En það er ekki bara órekjanleikinn sem um er að ræða heldur líka það að Concord Ultimax 2 barnastóllinn varð sl. vor í efsta sæti í evrópskri

barnastólakönnun. Það hefur efalaust ráðið nokkru um val ábyrgra foreldra og gerir málið neyðarlegra en ella. Luise Mai Cordsen lögfræðingur hjá FDM segir að þar sem skaðlegt efni hafi fundist í stólunum ráðleggi hún að kaupendur skili stólum sínum þangað sem þeir voru keyptir. Þar sem beltin eru saumuð föst við áklæðið á stólum þessum sé ekki skynsamlegt að reyna sjálfur að spretta upp saumunum til að losa beltið frá og fá nýtt til að sauma á stólinn. Slíkt geti komið niður á öryggi barnsins. En ef söluaðili neitar að endurgreiða stólinn skuli kaupandi krefjast þess að framleiðandi geri við stólinn og láni annan á meðan viðgerð stendur, og að tryggt sé að hann sé eiturefnalaus og að öðru leyti

   



37


EITT SKEMMTILEGASTA TÍMABIL ÆVINNAR

l

FÍB-VIÐTALIÐ

-segir Erling Andersen um árin í vegaþjónustu FÍB

„Kannski var hápunkturinn hjá mér fyrsta rallið á Íslandi vorið 1975 Ég var einn af þeim sem skipulögðu það ásamt Bjarna Jónssyni rafvirkja. Við skipulögðum sérstakt talstöðvanet til að stjórnendur og starfsfólk gætu haft samband þar sem þá fyrirfundust engir farsímar. Á hverri sérleið voru hlið sem keppendur þurftu að fara í gegn um,“ segir Erling Andersen bifvélavirki. Hann hefur í áratugi

verið öflugur liðsmaður FÍB og er einn þeirrra frumherja sem settu vegaaðstoð FÍB á fót upp úr 1960 og gerðu hana að því eftirminnilega fyrirbæri sem hún svo varð. Þeir Íslendingar sem komnir eru vel yfir miðjan aldur minnast enn rækilega merktra FÍB vegaþjónustubílanna, tilkynninganna í útvarpi um mestu ferðahelgarnar um hvar FÍB- númer þetta eða hitt væri staddir þessa

Land-Rover floti FÍB. Land Rover vegaþjónustubílar FÍB voru áberandi í umferðinni á árunum 19601970. Fyrstu þrjá jeppana eignaðist félagið þannig að breska systurfélagið AA gaf FÍB þá. Gjafabílarnir eru afturgluggalausu bílarnir þrír á myndinni

38

og þessa stundina og á hvaða leið bílarnir væru. FÍB blaðið ræddi við Erling um þennan tíma í sögu FÍB sem mörgum er ofarlega í huga. Erling var einmitt einn af öflugustu vegaþjónustumönnunum og óhætt er að fullyrða að hann og aðrir vegaþjónustumenn unnu oft á tíðum þrekvirki og viðgerðaafrek úti í vegarkanti í allavega veðrum.


En aftur að fyrsta alþjóðlega rallinu á Íslandi vorið 1975: Það var talsvert flókið að skipuleggja það, enda var keppnin viðamikil og sérleiðir fjölmargar. Hlið var inn á hverja sérleið þar sem keppnisbílar voru ræstir og Í hverju hliði þurfti að vera sérstakur bíll með talstöð svo samskipti milli starfsmanna og tímavarða væru sem skyldi og allar tímasetningar og tímatökur stæðust. „Þetta var talsvert flókið og í rauninni hefði keppnin verið óframkvæmanleg án talstöðvanna. Skipulagsvinnan var verulega flókið verkefni og mig minnir að við höfum verið rúma viku að berjast í því dag og nótt að koma þessu heim og saman, fyrst að finna leiðirnar, tímasetja þær og skipuleggja keppnisaksturinn og öll samskiptin þannig að ekkert gæti farið úrskeiðis. Öll skilaboð þurftu að komast óbrengluð sína boðleið í hvelli, hversu löng sem hún annars var. Ég man að ég þurfti að koma skilaboðum austur á Egilsstaði með hraði. Ég hafði engan aðgang að síma og kallaði því í talstöðina og bað um aðstoð að skila þeim áfram. Einhver sem var staddur uppi á Heillisheiði svaraði og kallaði boðin upp til annarra sem gátu komið þeim lengra og lengra. Svona gekk þetta koll af kolli og ég held að

það hafi tekið upp undir tíu mínútur þar til staðfesting kom til baka frá Egilsstöðum að skilaboðin væru mótttekin. Vegaþjónusta FÍB Vegaþjónusta FÍB var á upphafsárunum um 1960 talsvert ólík því sem hún er í dag, enda aðstæður allt aðrar en nú. Fólk var mest á faraldsfæti á sumrin og vegaþjónustan því aðeins í rekstri að sumrinu og þá nánast eingöngu um helgar. Í miðri viku var fólk heimavið en fór svo í ökuferðir um helgar. Vegaþjónustumennirnir voru á sama hátt bara í sinni vinnu

á virkum dögum en fóru síðan út á vegina strax upp úr hádegi á föstudögum og voru þar fram á sunnudagskvöld. Þeir brugðust við þegar bílar biluðu á vegum úti. Og það var sannarlega ýmislegt sem bilaði í bílum þá. Fjölmargt gat bilað í rafkerfinu, eins og kerti, kertaþræðir og platínur, viftureimar gáfu sig, dekk urðu loftlaus og pústkerfi og hljóðkútar losnuðu undan bílunum á misjöfnum malarvegunum. En vegaþjónustumennirnir sem flestallir voru bifvélavrvikjar, voru við flestu búnir og höfðu meðferðis hluti í flesta algengustu bílana og verkfæri til að skipta þeim út úti í vegakanti. En hvað var það sem helst bilaði?

FÍB hefur rekið nokkra bílaflutninga- og dráttarbíla, m.a. þennan sem hér er notaður til að hífa upp gamla DAF bifreið.

39


BÍLAPRÓFUN FÍB FÍB-VIÐTALIÐ

„Það voru bremsurnar. Þær biluðu oft og á margan hátt. Dælurnar gáfu sig, vökvarör gáfu sig og bílar urðu bremsulausir. En margt annað bilaði líka og ég man eftir einu atviki við Fossá í Hvalfirði. Þar hafði Citroenbíll stöðvast og þegar ég kom á staðinn reyndist töluverður hluti af aðal rafmagnskaplinum úr rafgeyminum í startarann vera gersamlega horfinn. Mig minnir að rafgeymirinn hafi verið hægra megin við vélina í bílnum en startarinn á vinstri hlið vélarinnar þannig að rafmagnskapalinn var talsvert langur. Svo hafði það gerst að einangrun hafði nuddast af kaplinum þannig rafmagnið leiddi út, gríðarlegur hiti myndaðist sem hreinlega bræddi kapalinn sundur en fyrir algera heppni þá kviknaði ekki í bílnum. Ég hafði engan kapal meðferðis til að bjarga þessu þannig að nú voru góð ráð dýr. Ég skimaði í kring um mig og kom þá auga á gaddavírsgirðingu þarna nærri. Ég klippti vænan gadddavírsbút úr henni, rakti vírana upp, fjarlægði gaddana og sneri síðan fjóra víraþætti saman og splæsti við bútana sem eftir voru af rafkaplinum í bílnum. Loks vafði ég utan um þetta allt saman þykku lagi af tjörueinangrunarbandi sem ég átti nóg af. Þetta dugði síðan til þess að koma bílnum í gang og fjölskyldan sem í honum var komst áfram í sitt sumarhús í Borgarfirðinum og síðan heim aftur eftir helgina. Dýnamófóðring í Volvo Þá man ég annað ekki ósvipað atvik

40

þegar ég kom að dönskum ferðamanni á Volvo PV 444 eða Volvo kryppu, eins og bílarnir voru kallaðir. Daninn hafði komið til Íslands með bílinn á millilandaskipi, sennilega Gullfossi, og ætlaði að ferðast um landið, en í Hvalfirðinum hætti bíllinn að hlaða. Hann komst þó að Botnsskála þar sem ég hafði bækistöð. Daninn var meðlimur í FDM, systurfélagi FÍB í Danmörku og því lá beint við að aðstoða hann. Í ljós kom að fóðring í dýnamónum var ónýt og ég átti enga nýja fóðringu í aðstoðarbílnum enda var svona fóðring fremur sérhæfður varahlutur. En til að freista þess að bjarga þessu til bráðabirgða þá fékk ég tóman málm-olíubrúsa hjá Pétri stjórnanda Botnsskálans. Ég klippti stykki úr brúsanum, sneið það til og bankaði og formaði og bjó þarna til bráðabirgðafóðringu sem ég setti í dýnamóinn (jafnstraumsrafalinn). Síðan skrúfaði ég dýnamóinn saman og setti síðan á sinn stað í bílnum og viti menn, allt virkaði á ný. Ég lagði á það ríka áherslu við Danann að hann gæti ekki treyst þessari viðgerð lengi, en skyldi reyna að komast á þessu í Borgarnes. Þar skyldi hann fara beint á verkstæði og fá rafalinn almennilega viðgerðan með nýrri fóðringu. Svo heyrði ég ekkert meir þannig að ég taldi að þetta hefði allt náðst. En tveimur eða þremur vikum seinna þá var ég staddur á skrifstofu FÍB í Reykjavík þegar Daninn allt í einu birtist þar til að þakka FÍB fyrir veitta þjónustu við Botnsskála. Ég spurði hann hvort þeir hefðu gert við bilunina í Borgarnesi fyrir hann, en hann sagði svo ekki vera. Allt hefði verið í fínasta lagi svo hann hefði ekkert verið að ómaka Borgnesingana, heldur bara ekið áfram sem leið lá norður í land. Hann hefði síðan

ferðast vítt og breitt um Norður- og Norðausturland og nú aftur kominn til Reykjavíkur til að taka skipið heim til Danmerkur á ný. Dýnamórinn í bílnum virkaði fullkomlega og héldi fullri hleðslu á rafgeyminum ennþá – allt á fóðringunni góðu sem ég smíðaði úr blikkbrúsanum frá Pétri í Botnsskála.“ Erling segir að þjónustuþegarnir hafi verið upp og ofan eins og gengur. Flestir hafi verið bæði fegnir og þakk-látir fyrir veitta aðstoð en sumir mjög kröfuharðir gagnvart vegaþjónustumönnum og ætlast til þess að þeir gætu hreinlega bjargað öllu, ekki síst því sem þeir sjálfir höfðu klúðrað og brugðust reiðir við þegar fátt var til bjargar eða ef draga bilaða bílinn á verkstæði, jafnvel um langan veg þar sem ekki voru við hendina varahlutir eða aðstaða til meiriháttar viðgerða úti í vegarkanti fjarri byggð. „En ég gætti þess alltaf að vera með það helsta sem gat gefið sig, eins og kerti, platínur, kertaþræði, þétta og kveikjuhamra og slíkt sem helst átti það til að gefa sig í bílunum. Svo vel vildi til að sumir þessara hluta pössuðu í margar tegundir og gerðir bíla þannig að ekki var nauðsynlegt að vera með eins marga þessara hluta og mátt hefði ætla. En stundum lenti maður í stærri viðgerðum eins og að skipta um drif, kúplingu eða jafnvel um vél í bíl. Það var stundum ótrúlegt hvað manni tókst að gera með nánast ekkert í höndunum. Hvorki varahluti né tæki og áhöld, heldur einungis einföldustu og nauðsynlegustu verkfæri. Á þessum árum upp úr 1960 var reyndar mikill hörgull á varahlutum og ekki einu sinni dekk fáanleg langtímum saman.“ Bílarnir og fólkið En á þessum árum ríkti bjartsýni og uppgangur. Efnahagur almennings fór batnandi og með tilkomu vöruskiptaverslunar, m.a. við Sovétríkin gafst almenningi kostur á að kaupa nýja sovéska bíla og aðra austantjaldsbíla og að nokkru leyti líka vesturevrópska. Jafnframt fór áhugi fyrir bílum vaxandi og margir sáu hag sínum vel borgið með því að vera sem mest sjálfbjarga í bílamálum


námskeiðin heldur vinir þeirra og kunningjar líka.“ En eftir því sem bílum fjölgaði jókst þörfin fyrir að góð verkstæði en einnig og ekki síður góðar bílastillingar til að bílarnir nýttu sem best rándýrt eldsneytið og að þeir entust líka sem allra best. Erling festi í framhaldinu kaup á mjög öflugri bílastillingavél hjá Agli Vilhjálmssyni sem hreinlega gat lesið alla bíla svo stilla mætti þá eins vel og hægt væri. Stillingavélin var rándýr og kostaði hátt í íbúðarverð. En til að vélin ynni eins vel og mögulegt væri þurfti að kunna vel á hana og möguleika hennar. Sveinn Oddgeirsson hafði því milligöngu um það að Erling komst inn á námskeið sem haldið var í tækniháskólanum í Aarhus í Danmörku. „Ég fór síðan til Danmerkur og á þetta námskeið stóð nokkurn enda mjög Verslunarmannahelgi í Bjarkarlundi. Tveir sem vegaþjónustubílar frátíma FÍB mættir á staðinn, annar þeirra bandarískur fólksbíll en hinn breskur Austin Gypsy jeppi. víðtækt og vandað. Þegar ég svo kom

og fær um að halda bílnum sjálfur við sem mest. Erling hafði stofnað bílastillingaverkstæði í Hafnarfirði og upp kom sú hugmynd hjá honum og samstarfsfólki hans í FÍB að gangast fyrir stuttum námskeiðum í skyndihjálp bíla, það er að segja að fræða fólk um bílana og helstu innviði þeirra, meðferð þeirra og viðhald. „Við tókum í þetta einar tvær helgar og aðsóknin var gríðarlega mikil, miklu meiri en við höfðum vænst. Við fórum yfir helstu hluta og kerfi bílsins, hvernig þau vinna og hvers þau þarfnast til að endast vel. Þá kenndum við fólkinu að gera við ýmislegt smálegt eins og að skipta um kerti og

kveikjuhluti og minntum á að gott er að hafa með sér lágmarks varahluti þegar farið væri í lengri ferðalög. Ennfremur kenndum við að skipta um dekk og veitti nú sumum ekki af þeim lærdómi. Ég man að ég tók í sundur rafgeymi til að geta skýrt það út hvernig hann starfaði og hvernig ætti að halda honum við. Fólkið gat þar séð sellurnar í geyminum og botnfallið en þegar botnfallið hefur náð upp í sellurnar er geymirinn ónýtur. Þetta þóttu sumum mikil vísindi og illskiljanleg. Þetta voru skemmtilegir tímar og

heim aftur þá má segja að ég hafi verið fullnuma á tækið og og þá fór það líka virkilega að virka. Þá sá ég að ég hafði fjárann ekkert kunnað áður, þannig að námskeiðið skilaði sannarlega sínu. Þessi stillingavél var mjög tæknilega fullkomin. Þótt þetta væri löngu fyrir tíma tölvutækninnar og tölvustýrðra bíla nútímans þá gat þessi stillingavél hreinlega lesið allt sem máli skipti í bílnum og gangi hans og vinnslu. Hún las ástand kertanna, kertaþráðanna, háspennukeflisins og allra hluta kveikjunnar og reyndar allt rafkerfið og gat sagt nákvæmlega til um hvað væri að og hvað þyrfti að gera til lagfæringar. Aðstoðarbíll úti á sjó Verslunarmannahelgin er gamalli venju samkvæmt mesta ferðahelgi ársins og þá var jafnan mestur viðbúnaður hjá Vegaþjónustu FÍB.

margt á döfinni. Námskeiðin okkar féllu í mjög frjóan jarðveg og ég man eftir því að Sveinn Oddgeirsson sem þá var framkvæmdastjóri FÍB sagði að í kjölfar námskeiðanna okkar hefði fjölgað ótrúlega mikið í FÍB. Fjöldi fólks hefði gengið í félagið í kjölfar þeirra, ekki bara þeir sem sóttu 41


BÍLAPRÓFUN FÍB FÍB-VIÐTALIÐ

fólksbíll en hinn breskur Austin Gypsy jeppi.

Skemmdi bíllinn er rússneskur Moskvits frá því um 1960. Framan við Moskvitsinn er Erling (2. f.v.) að kenna á bíltækninámskeiði FÍB og fyrir neðan er Sveinn Oddgeirsson fyrir miðju að útskýra gang Volkswagenvélar. Neðst er bílaflutningabíll og Land Rover, báðir rækilega merktir Vegaþjónustu FÍB. Á litmyndinni sést vegaþjónustumaðurinn Erling lagfæra bremsurnar í Opel bíl úti í vegarkanti.

42


Íslensku malarvegirnir voru erfiðir mörgum bílum. Hér er verið að reyna að gera Renault Dauphine ferðafæran á ný. Á neðri myndinni er kanadískur hertrukkur sem Erling eignaðist, smíðaði sjálfur á hann gálgann og annan búnað til að gera hann að dráttarbíl.

spurði hann hvar hann væri. Strákurinn, sem kannski var ekki með áttirnar alveg á hreinu svaraði því til að hann væri rétt suður af Akranesi og þessi sérstæða staðsetning var síðan margendurtekin í útvarpinu þar til einhverjum útvarpsþulnum þótt þetta eitthvað undarlegt. Hann velti þessu fyrir sér í beinni útsendingu og varpaði því fram si svona hvort FÍB maðurinn væri á sjóbíl, eða hvað? -Hvernig ætli veðrið og sjólagið sé hjá honum þarna úti í bugt? spurði útvarpsmaðurinn.“

Erling segir að þá hafi hreinlega allt orðið vitlaust stundum, ekki síst ef veður var gott og stórar útihátíðir í gangi einhversstaðar. „Eina verslunarmannahelgina var ég með tvo aðstoðarbíla á mínum vegum sem þjónustuðu svæðið frá Akranesafleggjara austur að Þjórsá. Annar bíllinn þjónaði vestursvæðinu en hinn austursvæðinu. Svo var líka þjónustubíll í Borgarnesi þessa sömu helgi, en hans þjónustusvæði náði frá Borgarnesi að Akranesafleggjara. Eins Ábyrgir menn og oftast á þessum árum var mikill viðbúnaður um verslunarmannahelgar Erling segist hafa lagt mikið upp úr því að hafa ábyrga samstarfsmenn hjá okkur í FÍB, hjá lögreglu og ekki síst hjá Ríkisútvarpinu sem þá var eina á aðstoðarbílum sínum og lagt ríka útvarpsstöðin í landinu. Útvarpið tók áherslu á það við þá að þeir væru á rækilega merktum bílum og mættu virkan þátt í viðbúnaðinum og sendi ekkert gera sem komið gæti illu orði stöðugt út tónlist, umferðarfréttir, viðtöl, skemmtiefni og leiðbeiningar til á félagið. Allir hefðu áttað sig vel á fólks á ferðalagi og tilkynnti reglulega þessari ábyrgð sinni en á því hefði hvar vegaþjónustubílar FÍB væri þessa aðeins ein undantekning komið upp. Það var í grennd við Laugarvatn og hina stundina og á hvaða leið. Ég þar sem sást til aðstoðarbílsins í minnist þess að sá sem var á hinum utanvegaakstri sem skildi eftir allmikil aðstoðarbílnum mínum, þegar hann ummerki. Sá ungi maður hefði verið hafði farið að aðstoða fólk á bíl ekki snarlega sendur heim og annar langt frá Akranesi. Útvarpið kallaði fenginn í hans stað. hann upp í Gufunestalstöðinni og

„En þetta voru yfirleitt skemmtilegir dagar þótt atið og annirnar væru stundum mjög miklar. Bílarnir voru líka misjafnir en algengustu tegundirnar á þessum tíma voru Moskvits og aðrir austantjaldsbílar en líka Citroen og Renault. Amerískum bílum hafði fækkað enda voru gjaldeyrishöft við lýði og fáir fengu að flytja inn bíla frá Bandaríkjunum enda þótt þeir væru á þessum tíma þeir bílar sem best hentuðu og dugðu á hina misjöfnu íslensku vegi. Amerísku bílarnir voru lang bestu bílarnir þá. Fjöðrunarbúnaður þeirra, hemlar og vélar var allt miklu betra en í öðrum bílum. Það var ekki hægt að líkja því áður,“ segir Erling. „En varahlutaskortur var líka viðvarandi. Erling segist vel muna að leigubílstjórar sem óku mikið hafi oft verið í vandræðum með fjaðrir og fjaðragorma sem var orðið sigið og bælt og nýjar fjaðrir ófáanlegar. Ég tók stundum leigubíla inn á verkstæðið um helgar til þess að berja upp í þeim fjaðrirnar til að hækka þá upp, sérstaklega á veturna. Það gerði ég þannig að ég tjakkaði bílana upp og tók öll fjaðrablöðin nema augablaðið úr fjöðrunum og kaldbarði upp blöðin með sleggju á steðja. Síðan setti maður nýbarin blöðin í fjaðrirnar á ný og bílarnir lyftust allir upp við þetta. Þetta dugði í svona þrjá til fjóra mánuði. En leigubílstjórarnir voru hæst ánægðir og voru tilbúnir að borga vel fyrir þessi viðvik og jafnvel leggja með hálfflösku af ákavíti með þegar vel lá á þeim.

43


BÍLAPRÓFUNFÍFÍBB FÉLAGSSTARF

LÁGREIST FRAMGANGA TRYGGINGAFÉLAGS

Félagsmaður í FÍB og eiginkona hans urðu fyrir því óláni sl. vor að ekið var á heimilisbíl þeirra og hann skemmdur það mikið að Tryggingafélagið VÍS sem tryggði bíl tjónvaldsins, taldi ekki svara kostnaði að gera við skemmdu bifreiðina heldur greiða hana út.

Bíllinn var af gerðinni Peugeot 607, árg. 2005, svipaður bílnum á myndinni. Sú upphæð sem VÍS bauðst til að greiða fyrir bílinn var hins vegar langt undir gangverði samskonar bíla. Eftir fjölda samningafunda mánuðum saman um verð á bílnum var orðið ljóst að tryggingafélaginu yrði ekki þokað. Því leituðu hjónin sl. haust til FÍB sem mat málið þannig að það verð sem VÍS bauð fyrir bílinn væri allt of lágt og því ósanngjarnt. Lögfræðilegur ráðgjafi FÍB taldi því að það lægi beint við að vísa ágreiningnum til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum. Það er hlutlaus nefnd sem úrskurðar í ágreiningsmálum við vátryggingafélög gegn 6.000 kr. málskotsgjaldi. Almennt tekur úrskurðarnefndin aðeins til meðferðar ágreiningsefni þar sem deilt er um bótaskyldu. Sérstaklega er hins vegar gert ráð fyrir því í samþykktum nefndarinnar að hún geti veitt álit á bótafjárhæð, enda leggist hlutaðeigandi vátryggingafélag ekki gegn slíku málskoti neytanda. 44

Með slíku málskoti er þar með boðið upp á neytendavæna og ódýra leið fyrir báða aðila til að fá hlutlausan úrskurð um ágreining sinn. Það kom því FÍB verulega á óvart þegar félagsmaðurinn tjáði FÍB að VÍS hefði alfarið lagst gegn því að úrskurðarnefndin myndi taka þetta mál til meðferðar. Með því framferði lagði VÍS stein í götu félagsmannsins við að fá hlutlausa úrlausn málsins, enda augljóslega ekki á allra færi að ráða sér lögmann og höfða mál fyrir dómstólum í tilvikum sem þessum. Þegar FÍB fékk umræddar upplýsingar ákvað lögfræðingur FÍB að rita VÍS erindi vegna málsins. Í framhaldi af því brást VÍS skjótt við og hafði samband við umræddan félagsmann og var nú allt í einu reiðubúið til að greiða félagsmanninum 40 prósent hærra verð fyrir bílinn en það hafði áður verið tilbúið að greiða. Vinnubrögð tryggingafélagsins í þessu máli vekja upp ýmsar áleitnar spurningar. Í því hafði félagsmaðurinn um langt skeið átt árangurslausar viðræður við VÍS og þegar hann hugðist loks leggja málið í farveg þar sem hlutlaus úrskurðarnefnd myndi veita álit sitt á málinu lagðist VÍS gegn því án þess að haldbær rök væru fyrir því. Öll aðkoma VÍS að málinu

-þvældist fyrir hlutlausum úrskurði um tjónabætur en sá að sér eftir afskipti FÍB svo mánuðum skipti virðist einungis hafa beinst að því að komast hjá því að greiða félagsmanninum þær bætur sem hann átti sannarlega rétt á. Flestir hefðu líklega löngu verið búnir að gefast upp á því stigi sem félagsmaðurinn hafði aftur samband við FÍB. Þá hafði VÍS tjáð honum að lagst yrði gegn því að úrskurðarnefndin tæki málið til meðferðar. Skjót viðbrögð FÍB í framhaldinu virðast hafa valdið VÍS hughvörfum í málinu. Velta má því fyrir sér hvort framangreindir starfshættir VÍS samræmist góðum viðskiptaháttum og venjum eins og 6. gr. laga nr. 56/2010 um vátryggingastarfsemi gerir ráð fyrir. Þá má velta fyrir sér hversu margir bifreiðaeigendur eru hreinlega „snuðaðir“ í samskiptum sínum við VÍS ef þetta mál er einhver vísbending um þau vinnubrögð sem vátryggingafélagið stundar í málum þar sem altjón verður og greiða þarf út verðmæti bifreiða.


BÍLHLUTURINN DÝRARI EFTIR NIÐURFLLINGU VÖRUGJALDS - skrýtnar verðupplýsingar bílaumboðs - voru leiðréttar eftir afskipti FÍB

Þ

að kom fljótt í ljós eftir áramótin þegar vörugjöld höfðu verið lækkuð eða felld niður af bílavarahlutum og virðisaukaskatturinn lækkaður, að full þörf var (og er) á því að fylgjast vel með því hvort lækkun vörugjalda á bifreiðavarahluti skili neytendum lægra vöruverði eða ekki. Ágúst Ú. Sigurðsson félagsmaður í

FÍB þurfti að endurnýja eldsneytisgeyminn í Galloper-jeppa sínum. Um miðjan desember sl. hringdi hann í umboðið (BL) og var sagt að geymirinn væri ekki til á lager en myndi kosta ca. 98 þúsund kr. hingað kominn. Ágúst ákvað því að bíða fram yfir áramótin þegar vörugjalda– og VSK-breytingar fjárlaga væru gengnar í gildi. Það gerði hann svo þegar flest ætti að vera komið á hreint í þessum málum. En svörin voru undarleg og á þann veg að tankurinn væri ekki til á lager en pöntunartími væri um ein vika. En Ágústi til mikillar undrunar hafði eldsneytisgeymirinn ekki lækkað heldur hækkað í verði um þúsund kall og átti nú að kosta 99 þúsund krónur. Þegar Ágúst spurði afgreiðslumann umboðsins hvernig það mætti vera nú þegar hluturinn bæri ekki lengur vörugjöld og VSK hefði auk þess lækkað, taldi sá sem fyrir svörum var,

að hugsanlegt væri að engin vörugjöld hefðu áður lagst á eldsneytistanka. Hann væri þó ekki viss. Af þessu tilefni hafði FÍB samband við embætti tollstjóra sem gaf þær upplýsingar að á eldsneytisgeymum í bíla hefði áður lagst 15% vörugjald sem nú væri fallið brott. Jafnframt var upplýst að sumir varahlutir í bíla hefðu áður vissulega verið

undanþegnir vörugjöldum, eins og t.d. eldsneytisdælur, legur og tannhjól og vélahlutir eins og legur og stimplar. En það var semsé skýrt að eldsneytistankar hefðu borið 15% vörugjald sem nú væri fallið brott. Miðað við einnar viku pöntunar/ afgreiðslutíma þá er ljóst að umboðið myndi panta tankinn frá lager í Evrópu og þá greiða hann í evrum en gengi evru var þegar bæði þessi samskipti Ágústs við umboðið áttu sér stað, nokkurnveginn alveg það sama. En eftir áramótin þegar 15% vörugjald lagðist ekki lengur á tankinn sem átti að kosta 98 þús. kr. um miðjan desember og VSK (sem lagðist ofan á kaupverð +vörugjald + flutningskostnað) hafði lækkað úr 25,5 í 24%. Hefði tankurinn auðvitað átt að hafa lækkað í verði um ríflega 13 þúsund krónur.

Óskað var skýringa á þessu hjá BL og barst svohljóðandi skriflegt svar frá Heiðari Sveinssyni framkvæmdastjóra BL: „Í frétt sem er birt hjá ykkur á FÍB vefnum er vísað í samskipti Ágústs Ú. Sigurðssonar sem hann átti við BL ehf vegna verðs á elsdneytistank í Hyundai Galloper. BL ehf hefur í vinnslu þessara breytinga (á vörugjöldum og VSK..innsk blm.) lagt höfuð áherslu á að þær kæmu allar til neytenda í síðasta lagi við áramót. Þegar staðfest var orðið að virðisaukaskattur færi úr 25,5 í 24% um áramót lækkaði BL ehf verð á bílum strax í kjölfarið og var því lokið fyrir jól. Síðan þegar það var orðið ljóst að vörugjöld færu af varahlutum lækkaði BL allan lager í landinu sem hafði borið vörugjöld. Það var tekin ákörðun um að þessi lækkun kæmi neytendum strax til góða óháð því hvort BL ehf hefði keypt inn vöruna með vörugjöldum. Þessari vinnu lauk líka fyrir jól. Varan sem Ágúst spurði eftir hefur aldrei verið til hjá BL ehf, þegar þannig kemur upp er erlenda verð vörunnar reiknað út í reikniforriti sem er óháð lagernum okkar. Sá misbrestur var á að það láðist að breyta forsendum í reikniforriti og því er varan með nánast sama verði á fyrrgreindum tímum. Rétt verð á vörunni í dag er 86.000 kr. BL er í mun að skila þessum kjarabótum til viðskiptavina og harma þessi mistök í upplýsingagjöf. Kær kveðja, Heiðar Sveinsson framkvæmdastjóri.» ...

45


BÍLAPRÓFUN FÍB NÝIR BÍLAR

Bentley Bentley sýndi frumgerð tveggja sæta ELDSNEYTISVERÐLÆKKUNIN keppa sportbíls; Bentley EXP10 sem ætlað er að á markaði við Ferrari California T og Aston Martin Vantage. Fyrir hjá Bentley er ENDURSPEGLUÐ virðuleikasportbíllinn Continental GT.

S

ú olíuverðlækkun sem orðið hefur undanfarið endurspeglaðist nokkuð ljóslega á bílasýningunni í Genf sem lauk nýlega því að ofuröflugir og ofur-hraðskreiðir bílar voru þar áberandi. Gömul hefð er fyrir því að á Genfarsýningunni sýni evrópsku bílaframleiðendurnir það nýjasta og framsæknasta hverju sinni. Á árum áður þegar eldsneytisverð var í hæstum hæðum lögðu framleiðendur áherslu á sparneytnina og sýndu mjög sparneytna bíla, tvíorkubíla og rafbíla. Nú þegar eldsneytið hefur lækkað verulega er öldin greinilega önnur. Óvissa er hins vegar um hversu lengi eldsneytisverðið helst lágt og lítill vafi er á að það muni hækka. Megin verðkúrvan verður vafalítið upp á við þótt það muni gerast í sveiflum og það mun örugglega endurspeglast í nýju bílunum í næstu framtíð. En er á meðan er. Hér eru nokkur dæmi um mikil ofurtæki en einnig um nýja bíla fyrir venjulegt fólk.

46

Audi frumsýndi nýja kynslóð R8 ofurbílsins í bæði bensínvélar- og rafmagnsútgáfu. Nýi R8 bíllinn deilir sömu vél og sama undirvagni og ítalska tryllitækið Lamborghini Huracan. Vélin er V10, 610 hö.

Ennfremur var sýndur nýr ofur- langbakur sem kallast Audi Prologue Avant.


Aston Martin Aston Martin frumsýndi kappakstursbílinn Vulcan. Þetta er keppnisbíll sem er að sögn framleiðandans sá rosalegasti frá Aston Martin nokkru sinni í 102 ára sögu bílasmiðjunnar. Vulcan verður hins vegar enginn fjöldaframleiðslubíll því gert er ráð fyrir því að einungis 30 bílar verði byggðir. Vélin í tækinu er 12 strokka og a.m.k. 750 hestöfl. Breski sport- og ofurbílaframleiðandinn McLaren frumsýndi tvo ofurbíla í Genf; P1 GTR og 675LT. Sá fyrrnefndi (t.h. á mynd) er kappaksturs-tvinnbíll með tveggja túrbína, 3,8 l V8, 986 ha. bensínvél og rafmótor. Þessi bíll er einungis til nota á kappakstursbrautum og er ekki skráningarhæfur fyrir almenna umferð. Hinn bíllinn; 675LT er sportbíll sem hægt verður að skrá til almennrar notkunar. Vélin í honum er líka 3,8 lítrar að rúmtaki en „aðeins“ 666 hö.

Borgward Borgward er gamalt þýskt bílmerki sem varð gjaldþrota fyrir 54 árum. Borgward var talsvert stór og öflugur bílaframleiðandi í Þýskalandi og auk Borgward bíla framleiddi fyrirtækið Lloyd smábíla og Goliath vörubíla. Eftir heimsstyrjöldina spjaraði Borgward sig nokkuð vel um tíma en svo tók að halla undan fæti og varð Borgward gjaldþrota 1962. Christian Borgward, barnabarn gamla Carls Borgward hyggst nú endurreisa merkið og var reiknað með að hann myndi sýna frumgerð nýs bíls í Genf sem færi fljótlega í fjöldaframleiðslu hjá kínverska bílaframleiðandanum SAIC. Það urðu því vonbrigði að enginn nýr bíll sást í sýningarbás Borgward heldur aðeins þessi gamli bíll og svo líka myndir af af bílum frá því um 1960, sem að vísu voru afar fallegir. 47


BMW

BÍLAPRÓFUN FÍB NÝIR BÍLAR

BMW í Munchen í Þýskalandi hefur lengi framleitt ágæta fólksbíla og lengstum auðkennt stærðarflokka sína með tölustöfum frá 3-7. BMW hefur haldið fast í það að hafa vélarnar frammi í bílunum og drifið á afturhjólum en nú er að verða breyting á hvoru tveggja. BMW frumsýndi í Genf nýjan fjölnotabíl sem sérstaklega er hugsaður fyrir þarfir ungra fjölskyldna. Bíllinn tilheyrir hinni nýju 2-línu BMW og er gerðarheitið Gran Tourer. Hann er framhjóladrifinn og sjö sæta. Þrátt fyrir sætin sjö (þrjár sætaraðir) er bíllinn ekkert lengri en systurbíllinn og fyrirrennarinn Active Tourer sem er fimm sæta.

Ferrari Ferrari frumsýndi Ferrari 488 GTB. Vélin í honum er 3,9 lítra V8 með tveimur túrbínum, 660 hö. Hann er þrjár sekúndur að ná 100 km hraða úr kyrrstöðu.

Ford Ford frumsýndi sportútgáfu fjölskyldubílsins Focus. Hún nefnist Focus RS og verður fyrsti RS-bíllinn frá Ford sem seldur verður á Bandaríkjamarkaði frá og með næsta ári. Hann er fjórhjóladrifinn. Vélin er 4 str. 2,3 l með túrbínu – 315 hestafla.

Hyundai Jepplingurinn Hyundai Tucson hefur verið frískaður upp, skerpt á útlínum og reynt með því að skapa honum sérstöðu í þessum vinsæla flokki bíla.

Infiniti Með hinum nýja QX30 sem eiginlega er millistig jepplings og fólksbíls (Crossover) hyggst lúxusbíladeild Nissan reyna að ná athygli ungs vel stöndugs fólks. Infiniti, undirmerki Nissan, hefur gert þennan nýja bíl í tæknilegri samvinnu við Mercedes en þaðan er undirvagninn. Hann er sá sami og í Mercedes GLA jepplingnum. 48


Kia Kia Sportspace er frumgerð nýs langbaks af millistærð.

Lexus Lexus sýndi frumgerð að framtíðarbíl sem gæti hugsanlega keppt á markaði við Mini Cooper. Engar tækniupplýsingar né annað hefur verið látið uppi um bílinn að öðru leyti.

Mercedes Benz Mercedes sýnir lúxusbílinn Mercedes Maybach Pullman en þetta er bíll fyrir hina ofurríku sem sitja sjálfur aftur í og láta einkabílstjóra um aksturinn. Aftur í eru sæti fyrir fjóra en framí sitja ökumaður og lífvörður. Skothelt gler aðskilur rýmin tvö, en þeir sem afturí sitja stjórna því hvort þessi glerveggur er opinn eða lokaður.

Porsche Porsche frumsýndi hinn nýja Cayman GT4 í Genf. Vélin er sex strokka boxervél, sú sama og er í Carrera S. Hún er 385 hö.

Rolls Royce Hjá Rolls Royce hefur fengist staðfesting á því að verið sé að þróa hábyggðan bíl sem sagt er að muni komast leiðar sinnar hvar sem er. En ekki var sá bíll sýndur í Genf að þessu sinni heldur Rolls Royce Serenity sem er eins konar afleiða af viðhafnarbílnum Rolls Royce Phantom. Opel Opel verður framvegis Evrópumerki General Motors sem nú er að draga Kóreu-Chevrolet bílana út af markaðinum þar. Varahlutaþjónusta fyrir þá sem þegar eru í umferð verður haldið áfram, en engir nýir Chevrolet (áður Daewoo) verða í boði eftir næstu áramót. Í Genf varr hinn nýi smábíll, Opel Karl í forgrunni hjá Opel, en hann er arftaki smábílsins Chevrolet Spark og er reyndar byggður á sömu grunnplötu og nýjasta kynslóð Spark. Spark kemur ekki til með að fást í Evrópu. 49


BÍLAPRÓFUN FÍB LESENDUR FÍB BLAÐSINS

ÞARF AÐ VEKJA ALLT HVERFIÐ?

-Hver vill vera vakinn eldsnemma með bílflauti? Heimildarmaður þessarar áminningar sem birtist í Velvakanda Morgunblaðsins skömmu fyrir sl. jól sendi FÍB blaðinu hana til birtingar: -Mér gremst þegar bílflautan er notuð í öðrum tilgangi en gert er ráð fyrir. Hún á að vera samkiptatæki í umferðinni, notuð til að vara við

aðsteðjandi hættu og þess háttar. Hana á ekki að nota fyrir framan íbúðarhús sem merki um að bíllinn sé mættur á staðinn og nú sé beðið eftir því að sá sem flautað var á drífi sig út. Ég veit ekki hversu oft ég hef vaknað við þennan grófa samskiptamáta, að láta allt hverfið vita þegar það þarf að ná í einn mann. Nú eru komin fram ný samskiptatæki sem eiga að geta leyst

bílflautuna af hólmi og voru reyndar orðin almenningseign í lok síðustu aldar.“ Svar: Þörf ábending sem FÍB blaðið tekur heilshugar undir. Hátterni sem hér er lýst er samskiptamáti á villigötum og við þekkjum flest dæmi um hann. Verum samtaka um að ónáða ekki hvert annað með bílflauti né annarskonar óhljóðum.

AFBRAGÐS ÞJÓNUSTA FÍB AÐSTOÐAR VIÐ STOFNFÉLAGA SJÓVÁR Kristján Bragason skrifar: Komið þið sæl. Ég vildi notað tækifærið og koma á framfæri miklu hrósi til ykkar varðandi þjónustuna 4402222.

Ég lenti í því á laugardegi nýlega að það hvellsprakk á bílnum mínum og eftir smá stund var hann orðin rafmagnslaus (ekki spyrja mig hvernig það tengist). En það kom maður frá Vöku/FÍB aðstoð. Hann reddaði mér

FRÁBÆR VEGAÞJÓNUSTA Félagi í stofni hjá Sjóvá skrifar:

Fékk frábæra þjónustu hjá Vegaaðstoð Sjóvár þegar sprakk á bílnum við Búrfell Grímsnesi. Rærnar á dekkinu og lykillinn í

bílnum áttu ekki samleið og því þurfti ég að kalla á Vegaaðstoð. Maður frá Selfossi kom á staðinn sem treysti ekki alveg varadekkinu og því keyrðum við saman til Sefoss þar sem hjólbarðaverkstæði liðsinnti okkur. Bestu þakkir og áfram svona. Að lokum þá væri gaman að vita hver það

50

rafmagni og skipti um dekk og fylgdi mér síðan á næstu bensínstöð þar sem ég gat látið lagað loftþrýstinginn í dekkinu og koma bílnum í lag aftur. Ég hef ekki notað þessa þjónustu áður en þessi frumraun var mjög ánægjuleg og var ég virkilega ánægður með þetta. Vel að verki staðið hjá ykkur!

er sem veitir aðstoðina á Selfossi? Svar: FÍB aðstoð sinnir aðstoð við stofnfélaga tryggingafélagsins Sjóvár samkvæmt samningi FÍB aðstoðar og Sjóvár. Sá sem annast vegaþjónustu fyrir FÍB aðstoð á Selfossi og næsta nágrenni er Gunnar Þórmundsson.


F

FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19 OG VEFVERSLUN Á FIB.IS Fullkomin polaroide sólgleraugu með UV-400 gleri, sem gefur betri sýn í bæði sterku sólarljósi og skýjuðu veðri. Glerið fangar útfjólubláu geislana og tekur skyggingar í burtu.Frábær gleraugu á frábæru verði. Hulstur og klútur fylgir með. Verð til félagsmanna Varan fæst hjá FÍB að Skúlagötu 19 kr. 5.748.Opið frá kl. 8.15 - 16.30 virka daga. Almennt verð kr. 7.185.-

N ve

Fj A

FÍB SJÚKRATASKA Vönduð handhæg sjúkrataska í bíllinn með íslenskum merkingum frá Landsbjörg.

Verð til félagsmanna

kr. 3.528.-

Almennt verð kr. 5.040.-

Bón Hard Wax 250ml Kr.1.083

Bónklútar rauðir Kr. 672

Innihaldslýsing: Hreinsigrisjur, sárabindi, teygjubindi, heftiplástur, blástursgríma, sáragrisja, plástur, hanskar, álteppi, skæri, flísatöng, þrýstiböggull, augnskol, klemmuplástur, plásturslengja. Stærð sjúkratösku 19,5 sm x 14 sm

Vaskaskinnslíki Kr. 787

Felguhreinsir Kr.1.557

Plast & gúmmígel Kr.1.568

FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.15 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS

51


NÝJIR SAMSTARFSAÐILAR ÞJÓNUSTUBÓK FÍB 2015

Bjóðum nýja samstarfsaðila FÍB velkomna í hóp fjölda fyrirtækja sem veita félagsmönnum betri kjör á sinni vöru/þjónustu. FIFA barnavöruverslun. Bíldshöfða 20(Húsgagnahöllinni) Reykjavik Sími 570 5070 10% FÍB afsláttur af öllum barnabílstólum og öryggisvörum fyrir bíla, www.fifa.is

Fjallakofinn Laugarvegi 11, Kringlan 7, Reykjavík Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði Sími. 510 9505 10% FÍB afsláttur af öllum vörum. www.fjallakofinn.is

Gistiheimilið Hrafninn, Brekkugötu 4 Akureyri Sími 462 5600 25 % FÍB afsláttur af gistingu jan-apr & okt-des. www.hrafninn.is

10% FÍB afsláttur af smur og hjólbarðaþjónustu vinnu.

Smur og hjólbarðaþjónustan Vatnsnesvegur 16 og Framnesvegur 23 Reykjanesbær . s.421-4546

Xprent Sundaborg 1 Reykjavík, xprent.is, Sími 777 2700 30% FÍB afsláttur af sandblástursfilmum, strigaprentun, persónulegum gsm hulstrum, heimskorti (skuggamynd), íslandskorti (skuggamynd), “hrafnar 3 saman” (skuggamyndir) 15% afsláttur af öðru veggskrauti sem þú hannar.

10-15% FÍB afsláttur af varahlutum. 10% FÍB afsláttur af rafmagnsviðgerðum. 15% FÍB afsláttur af vinnu við ferðavagna.

10% FÍB staðgreiðsluafsláttur 5% FÍB afsláttur ef greitt er með kreditkorti Vogue fyrir heimilið Síðumúla 30, Rvk s.533 3500

20% FÍB afsláttur af göngugreiningum 15% FÍB afsláttur af vörum 15% FÍB afsláttur af af Asics, Brooks, Ecco, Feeturas o.fl Bæjarlind 4 Kópavogur, s. 55 77 100 gongugreining.is

10% FÍB afsláttur af dansnámskeiðum Samkvæmisdansar og Zumba

30 % FÍB afsláttur af gistingu jan-apr & okt-des

Hótel Akureyri, Hafnarstræti 67, s. 462 5600, www.hotelakureyri.

bilaorri.is Háholt 23 kjallara Mosfellsbæ Sími 6509700-6505001 15% FÍB afsláttur af vinnu. bilaorri.is

52

Skemmuvegur 34a Kópavogur. S. 571-4040 15% FÍB afsláttur af bremsudiskum og klossum.


SHOW YOUR CARD

SYC afsláttarklúbbur bílaklúbba! Félagsmenn FÍB hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbi í heimi Show your Card! landamæralaus afsláttarklúbbur bílaklúbba. Tugþúsundir staða út um allan heim sem gefa afslátt, ef þú ætlar að leigja bíl í fríinu, kaupa hótelgistingu, fara í dýragarðinn, vatnagarðinn eða á söfn kannaðu Show your Card! afsláttinn inná fib.is áður en þú ferð og ferðakostnaðurinn minnkar. Mundu eftir FÍB félagsskírteininu það veitir þér aðgang.

Jóhannes Karlsson 250467-4999 018887

KYNNTU ÞÉR SHOW YOUR CARD NÁNAR!

www.fib.is PortAventura Park 15% SyC! afsl. af dagsmiðum (1 klst. keyrsla frá Barcelona)

10-20%

15.00 DKK afsláttur af aðgangsverði 29.00 DKK afsláttur af “Ride Pass”

Legoland Discovery Center Berlin 2 fyrir 1 9.00 % afsláttur ef dvalið er 3 nætur eða lengur. The Dungeones 2 fyrir 1 Amsterdam

53


BIFREIÐAÞJÓNUSTA

Skemmuvegi 44m Kópavogi · www.bilarogtjon.is Avis bílaleigubílar á staðnum

bfo.is

Þjónustuverkstæði fyrir eftirtaldar bifreiðar

reynsla – þekking – góð þjónusta

Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar ehf

bfo@bfo.is

BG

BG

S VO

SV

T T UÐ ÞJ Ó NUS

TA

OT TUÐ ÞJÓNUS

TA

SMIÐJUVEGI 22 (GRÆN GATA) · 200 KÓPAVOGI · SÍMI: 567 7360

Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar

54


Aðalskoðun hf. Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði Sími 590 6900 www.adalskodun.is Skeifan 5 (hjá vínbúðinni) sími 590 6930 Grjóthálsi 10 (við vesturlandsveg) sími 590 6940 Skemmuvegur 6, Kópavogi sími 590 6935 www.adalskodun.is Frumherji hf. Hestshálsi 6-8, Reykjavík Skeifunni (Grensásvegi 7) Reykjavík Gylfaflöt 19, Grafarvogi, Dalvegi 22, Kópavogi Garðatorgi, Garðabæ, Sími 570 9090 frumherji.is Dalshraun, Hafnarfjörður, Sími 570 9217 Tékkland Borgartún 24, 105 Reykjavík Holtagarðar, Reykjavík s. 414-9914 Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður s. 414-9912 Dalsbaut 1, Akureyri sími. 414-9916

BÍLAHÚS

Bergstaðir - Bergstaðastræti 6, 101 Rvk. Kolaport - við Seðlabanka Íslands, 101 Rvk. Ráðhúskjallari - við Ráðhús Reykjav. 101 Rvk. Stjörnuport - Laugavegi 94, 101 Rvk. Traðarkot - Hverfisgötu 20, 101 Rvk. Vesturgata - Vesturgötu 7, 101 Rvk. Vitatorg - Skúlagötu/Vitastíg, 101 Rvk. Nánari upplýsingar www.bilastaedasjodur.is

BÍLALEIGUR

Bílaleiga Flugleiða ehf. www.hertz.is Sími 522 4400 Fax 522 4401 hertz@hertz.is

BÍLARÉTTING, SPRAUTUN,TJÓNAMAT Arctic trucks ehf. Klettshálsi 3, 110 Reykjavík Sími 540 4900, www.arctictrucks.is A.B. skálinn, Gagnheiði 11, Selfossi s. 482 2200 Bifreiðaverkst.Kaupf. Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími. 455 4570 fax.455 4571 Bílamálun Egilsstöðum ehf. Fagradalsbraut 21 Sími 471 2005, 700 Egilsstöðum, Bílamálunin Lakkhúsið, Smiðjuvegi 48 200 Kópavogi, Sími 567-0790, www.lakkhusid.is Bílar og tjón ehf.Skemmuvegi 44m Bleik gata 200 Kópavogi, Sími 578 5070, www.bilarogtjon.is Bílasprautun og réttingar Hjartar Smiðjuvegi 56 rauð gata, Kópavogi, S.587 9020, rettingar.is Bliki- Bílamálun og réttingar ehf, Smiðjuvegi 38 gul gata, 200 Kópavogi,S.567 4477 Bílverk BÁ ehf, Gagnheiði 3, 800 Selfossi Sími 482 2224, Fax 482 2354 www.bilverkba.is 5 stjörnu vottað, bilverkba@simnet.is Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík S. 567 8686 Lakkskemman ehf.Skemmuvegi 30, blá gata 200 Kópavogi, Sími 557 4540 Réttingaverk ehf,Hamarshöfða10,RvkS.5674343 Réttingaþjónustan ehf, Smiðjuvegi 40, gull gata Kópavogi, s. 557 6333, rettingathjounstan@itn.is Réttur – bílaréttingar, Funahöfða 17, 108 Reykjavík s. 587 6350, F 587 6351, rettur.net Smáréttingar ehf. – Réttingaþjónusta Smiðjuvegi 36 gul gata, 200 Kópavogi S.588 4644 Víkur-ós ehf, Bæjarflöt 6, 112 Reykjavík Sími 587 7760, Fax 587 7761, www.vikuros.is

BÍLASÖLUR

Bílver ehf. Innnesvegi 1, Akranesi s.431 1985, Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 471 1436, Nýir og notaðir

BÍLAVARAHLUTIR

AB Varahlutir, Bíldshöfða 18, Rvk, s.567 6020 E.T. Einar og Tryggvi, Klettagarðar 11 Rvk, S. 568 1580, F. 568 0844 www.et.is Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík Sími 520 8000, www.stilling.is Volvovarahlutir.is Parts4u.is, Febest.is

Varahlutaverslunin Kistufell ehf, Brautarholti 105 Reykjavík, Sími 562 2104, www.kistufell.is Mekonomen, Smiðsbúð 2, 210 Garðabær, Símli 527 2300, www.mekonomen.is Ljósboginn ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík Sími 553 1244, ljosboginn@simnet.is

BÍLAUMBOÐ

Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sími: 590 2100, www.askja.is Bernhard, Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík Sími: 520 1100, www.bernhard.is Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8, 110 Reykjavík Sími: 5157000 www.brimborg.is BL, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 525 8000 www.bl.is Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, 110 Reykjavík Sími: 590 2000, www.benni.is Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Toyota, Kauptún, Garðabær Sími: 570 5070, www.toyotakauptuni.is Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími: 568-5100, www.suzuki.is

ALMENN BIFREIÐAVERKSTÆÐI

Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, rauð gata, Kópavogi Sími 557 2540, Verkstæði/smurþjónusta, bilhusid.is Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d, rauð gata 200 Kópavogi, Sími 557 6400, Fax 557 7258 Bifreiðaverkstæðið Baugsbót, Frostagötu 1b, 603 Akureyri S.462 7033, Metanísetningar Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar Smiðjuvegi 22, græn gata, 200 Kópavogi Sími 567 7360, Fax 557 7374, www.bfo.is Bifreiðaverkstæði Grafarvogs ehf, Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík, Sími 577 4477, Þjón. Bílabúð Benna Bifreiðaverkstæði Jónasar, Skemmuvegi 46, 200 Kópavogur, sími 557 1430. www.jonasar.is Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri Iðjuvöllum 5, 880 Kirkjubæjarklaustri S.487 4630, Gsm 820 4515, Verkstæði, hjólbarðaverkstæði, Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, S.455 4570 F.455 4571 Bifreiðaverkstæðið Pardus. Suðurbraut 565 Hofsósi, S.453 7380 pardus@pardusehf.is, Bílanes – Grandanes ehf. Bygggörðum 8, 170 Seltjarnarnesi S.561 1190, GSM 698 2212. Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, Almennar viðgerðir. Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 4705070, www.bva.is Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílaþjónusta Péturs ehf, Vallholti 17, 800 Selfossi Sími 482 2050, Alhliða viðgerðaverkstæði, smurstöð Bíljöfur bifreiðaverkstæði ehf. - biljofur.is Smiðjuvegi 34, 200 Kópavogi, Sími 544 5151 Bílstál ehf, Askalind 3, Kópavogi Sími 564 4632 Bílver ehf, Innnesvegi 1,300 Akranesi S. 431 1985 Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Jeppasmiðjan ehf,Ljónsstöðum Árborg 801 Selfossi Sími 482 2858, Fax 482 1004, Varahlutir/breytingar Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi S. 564 1268, Þjónusta fyrir Renault, Hyundai, Land Rover, BMW Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Vélastilling sf, Auðbrekku 16, 200 Kópavogur Sími 554 3140, Fax 564 4460, velastilling@simnet.is

Vélrás Bifreiða- og vélaverkstæði velras@velras.is Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Sími 577 6670

BÍLSKÚRSHURÐIR OG OPNARAR

BIFREIÐAÞJÓNUSTA

BIFREIÐASKOÐUN

Glófaxi ehf. blikksmiðja, Ármúla 42, 108 Reykjavík Sími 581 2900, Fax 588 8336, www.glofaxi.is Héðinn, Gjáhellu 4, Hafnarfjörður, Sími 5692100 Bílskúrshurðaþjónustan, sími 892 7285

BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐVAR Bílaþvottastöðin Löður ehf, Sími 544 4540, www.lodur.is

HJÓLBARÐAR OG ÞJÓNUSTA

Barðinn Skútuvogi 2, Reykjavík, s. 568-3080. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími 455 4570 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, bilvogur@simnet.is Dekkjahöllin, Skeifan 5, 108 Reykjavík, S.581 3002 Draupnisgata 5, 600 Akureyri S. 462 3002 Þverklettar 1, sími 471 2002, www.dekkjahollin.is Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hátúni 2a 105 Reykjavík, Sími 551 5508 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Gylfaflöt 3 112 Reykjavík , Sími 567 4468 Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Sólning hf, Smiðjuvegi 68-70, 200 Kópavogi Sími 544-5000, www.solning.is Njarðvík, Fitjabraut 12, s.421-1399 Selfossi, Austurvegi 52, s,482-2722 Hafnarfjörður, Rauðhellu 11, s. 568-2035 Hafnarfjörður, Hjallahraun 4, s. 565-2121

PÚSTÞJÓNUSTA

Kvikk Þjónustan, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Drangahrauni 1, Hafnarfirði, s. 520 0600 kvikk.is

KERRUR OG DRÁTTARBEISLI

Vagnar og þjónusta,Tunguhálsi 10, Rvk s.567 3440

VERSLUN, LÁSASMIÐIR OG ÞJÓNUSTA

Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík Sími 567 2330, Fax 567 3844, bilasmidurinn.is Neyðarþjónustan lykla- og lásasmiður Skútuvogur 11, Reykjavík, s.5108888 Neyð.8006000

RAFGEYMAR OG ÞJÓNUSTA

Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17, 220 Hafnarfirði Sími 565 4060, www.rafgeymar.is Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík S. 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Skorri ehf, Bíldshöfða 12, 110 Reykjavík Sími 577 1515, Fax 577 1517, www.skorri.is

SJÁLFSKIPTIVIÐGERÐIR

Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi,S. 564 1268

SMURSTÖÐVAR

Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 14 00, bilaattan@bilaattan.is Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Smurstöðin Fosshálsi, Fosshálsi 1, Rvk s.567 3545 Smurstöðin Akranesi, Smiðjuvöllum 2, S.431 2445 Stimpill ehf, Akralind 9, Kópavogi, Sími 564 1268

VINNUVÉLAR

Vélfang ehf, Gylfaflöt 32, 112 Reykjavík Sími 580-8200, velfang@velfang.is www.velfang.is

55 55


Sumarið er að koma og dekkin okkar skora hátt! FRÁB

ÆRT

VERÐ

!

Goodyear á gæðadekk i góðu verð Efficientgrip

Intensa

MADE TO FEEL GOOD.

Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími: 590 5100 | Suðurhrauni 2b | 210 Garðabær | Sími: 590 5280 | www.klettur.is

SÖLUAÐILAR: Höldur Dekkjaverkstæði | Gleráreyrum 4 (við Glerártorg) | 600 Akureyri | Sími: 461-6050 | www.holdur.is/dekk

Gúmmívinnustofan | Skipholti 35 | 105 Reykjavík | Sími: 553 1055 - Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns | Hátúni 2a | 105 Reykjavík | Sími: 551 5508 56 V.I.P. dekk og viðhald | Eldhöfða 16 | 110 Reykjavík | Sími: 571 9111


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Fibbladid 1. tbl 2015 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu