1 minute read

Tesla er stærsti hreini rafbílaframleiðandi í heimi

Árið 2022 seldust fleiri en 10 milljón rafbílar og tengiltvinnbílar í heiminum, þar af voru um 60% seldir í Kína. Söluaukningin var 55% miðað við 2021. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Alls voru 14% allra seldra nýrra bíla rafknúnir árið 2022, um 9% árið 2021 og innan við 5% árið 2020.

Kína er með um 60% af rafbílasölu á heimsvísu. Meira en helmingur rafbíla í umferð um allan heim er nú í Kína og landið hefur þegar farið yfir 2025 markmiðið um sölu á nýorkubílum. Í Evrópu, næststærsta markaðnum, jókst rafbílasala um rúmlega 15% árið gera ráð fyrir að salan fari í 14 milljón rafbíla í ár en það samsvarar 35% aukningu á milli ára. Hátt olíuverð og hvatar á landsvísu munu hjálpa til við að efla sölu.

Mikil samkeppni er á rafbílamarkaðnum. Vaxandi fjöldi nýrra aðila, einkum í Kína en einnig frá öðrum markaðssvæðum, bjóða nýja rafbíla á viðráðanlegra verði. Metnaður stóru bílaframleiðandanna á rafbílamarkaði eykst stöðugt. Allt tengist þetta vaxandu fjárfestingum og samþættingu við rafhlöðuframleiðslu og öflun hráefna til framleiðslunnar.

Framboð tegunda og gerða rafbíla

Tesla er stærsti hreini rafbíla-framleiðandi í heimi með yfir 1,3 milljón bíla selda árið 2022. Tesla Model 3 er mest selda rafbílagerðin. Næst þar á eftir kemur BYD sem seldi um 900 þúsund hreina rafbíla 2022. Séu teknir saman hreinir rafbílar (BEV) og tengiltvinnbílar (PHEV) er BYD með mesta sölu eða hátt í 1,9 milljón selda bíla árið 2022. Í þriðja sæti kemur VW Group og þá Genereal Motors með dótturfyrirtækinu Wuling.

Framleiðsla BYD á fullknúnum rafbílum hefur aukist jafnt og þétt Framleiðsla BYD á fullknúnum rafbílum hefur aukist jafnt og þétt og var aukningin á raftengdum bílum hvorki

2022 en meira einn af hverjum fimm seldum bílum var rafknúinn. Sala á rafbílum í Bandaríkjunum, þriðja stærsta markaðnum, jókst um 55% árið 2022 og náði 8% söluhlutdeild.

Hátt olíuverð og hvatar á landsvísu munu hjálpa til við að efla sölu

Í ár er gert ráð fyrir góðri rafbílasölu. Yfir 2,3 milljónir rafbíla seldust á fyrsta ársfjórðungi sem er um 25% meira en á sama tímabili í fyrra. Áætlanir IEA hefur stóraukist á liðnum árum. Fjöldi mimunandi rafbílagerða fór yfir 500 árið 2022 sem er tvöföldun miðað við 2018. Fjöldi rafbílategunda í dag er enn umtalsvert minni en fjöldi brunahreyfilsbíla á markaði. meira né minna en 211% frá 2021–2022 samkvæmt tölum frá EV volumes í Svíþjóð.

Framboð á hefðbundnum brunahreyfilstegundum hefur jafnt og þétt dregist saman frá því að það náði hámarki um 2015.

BYD er nýr og spennandi valkostur á íslenska rafbílamarkaðnum. Vatt bílaumboð í Skeifunni 17 er umboðsaðili hér á landi. Gera má ráð fyrir að BYD muni að óbreyttu ná hylli neytenda hér á landi líkt og á alþjóðlegum rafbílamarkaði. BYD er einnig einn stærsti framleiðandi drifrafhlaðna fyrir rafbíla í heimsmarkaði.