2.tbl. 2021
Reynsluakstur
Sundabraut vegtollur
Orkuhringurinn
Ófullnægjandi akstursdrægni
Jeep Wrangler 4xe Renault Capture PHEV
Áhugaverðir staðir
STAFRÆNT FÍB SKÍRTEINI
Kjalarnesi
Mosfellsbæ Kirkjustétt Starengi Knarrarvogi Skúlagötu Háaleitisbraut
Bíldshöfða
Skeifunni
Öskjuhlíð
Sprengisandi
BYKO Breidd
Kópavogsbraut
Búðakór Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi)
Kaplakrika
Hafnarfjarðarhöfn
Egilsstöðum Fagradalsbraut 15
Stykkishólmi
Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi
Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO* Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika* Hveragerði Kjalarnesi Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ
Reykjanesbæ - Stapabraut Reykjanesbæ - Hólagata Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Háaleitisbraut Reykjavík - Kirkjustétt Reykjavík - Knarrarvogi Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi* Reykjavík - Starengi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum *afsláttarlaus stöð – okkar langlægsta verð.
ATLANTSOLÍA
FÍB
FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 18 krónu afslátt. Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.
MEIRA FYRIR
FÍB FÉLAGA
HJÁ ATLANTSOLÍU EF DÆLT er 150+ Ltr. á mánuði
1 8 KR
aFSLátTUR
16 Kr
Náum saman um skynsamar lausnir í samgöngumálum ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson Höfundar efni: Runólfur Ólafsson Jón Kristján Sigurðsson Eiríkur Hreinn Helgason Björn Kristjánsson Prófarkalestur Snorri G. Bergsson Forsíðumynd Berglind Ósk Birgis Filippíudóttir Mynd tekin niður að Lónsvík Umbrot Björn Kristjánsson Auglýsingar Gunnar Bender Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 18.000 FÍB blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 8.790.-
Ný tækni og breyttir samgöngumátar munu gjörbreyta samgöngum á næstu árum. Stærri hluti vegfarenda er sammála um aukna sjálfbærni í samgöngum. Bílar munu áfram gegna lykilhlutverki en aðrir samgönguvalkostir munu einnig vaxa og þróast. Það þarf að tryggja hreyfanleika almennings og vinna að uppbyggingu ólíkra samgöngumáta. Hámarks umferðaröryggi og umhverfisvitund verður stór hluti af þessari vegferð. Það er rörsýn að vilja útiloka einn samgöngumáta til að koma áherslum sínum að. Uppbygging samgöngumannvirkja er burðarásin í efnahags- og félagslegri hagsæld samfélagsins. Góðar samgöngur stytta vegalengdir, efla nýsköpun og bæta mannlíf. Bættar samgöngur eru mikið hagsmunamál bæði dreifbýlis og þéttbýliskjarna. Val um samgönguvalkosti til framtíðar þarf að miðast við arðbærustu, öruggustu og umhverfisvænustu lausnirnar á hverjum tíma. Borgarlínan í óbreyttu formi og vegtollar vítt og breytt um landið hafa verið lítið í efnislegri og pólitískri umræðu. Þessi stóru mál hafa aldrei verið lögð fyrir kjósendur í kosningum eða þjóðaratkvæðagreiðslu. Við erum fámennt samfélag og það er lýðræðisleg krafa til pólitískt kjörinna fulltrúa þjóðarinnar að leggja veigamikil mál í dóm kjósenda. Fyrir síðustu kosningar til Alþingis var enginn flokkur með vegtolla á stefnuskrá sinni og nánast allir flokkar töldu það ekki ákjósanlega leið til að fjármagna vegaframkvæmdir. Eftir kosningar er farið þvert á fyrri yfirlýsingar og nú á að fara í umfangsmiklar margra milljarða samgöngubreytingar sem kosta á með vegtollum. Notkun fjölskyldubílsins á að kosta uppbyggingu almenningssamgangna og annarra byggðaverkefna. Hugmyndin er að leggja nýja og aukna skatta á bíleigendur og þrengja á sama tíma enn frekar að bílanotkun á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Það gengur ekki að láta þröngsýni, sérhygli og rómantík um annað loftslag ráða för um vegabætur og uppbyggingu samgöngumannvirkja til framtíðar. Nú er tækifæri til að setja samgöngumálin á dagskrá með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi fyrir komandi kosningar til Alþingis þann 25. september 2021.
Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimilda getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is 4
FÍB-blaðið
Runólfur Ólafsson framkvæmdarstjóri
Efnisyfirlit: Vandræðalega góð afkoma........8 Dómur um akstursdrægni........10 Stafræn FÍB skírteini.................12 Þjónusta við vetnisbíla.............14 Hreinsun gatna.........................18 Úrvinnslugjald drifrafhlaðna...20 Orkuhringurinn........................22
Betra flæði og umferðarljósastýring Umferðarþunginn á höfuðborgarsvæðinu á morgnana og síðdegis, þegar fólk er að fara í og úr vinnu, skóla og annara starfa, er á stundum gríðarlegur. Það getur tekið drjúgan tíma fyrir ökumenn úr efri hverfum á höfuðborgarsvæðinu að koma sér á áfangastað og dæmi eru um að það taki þá stundum 30 til 40 mínútur. Þessi vandi vex með hverju árinu á meðan íbúum fjölgar og bílaflotinn stækkar. Eins og flestir urðu varir við dróst umferð verulega saman í kórónuveirufaraldrinum og fyrir vikið var flæði hennar allt annað og betra. Annar eins samdráttur hafði aldrei sést áður. Hægt og bítandi frá vormánuðum hefur umferðarþunginn farið í fyrra horf. Hvað er til að ráða til að koma meira flæði á umferðina svo að umferðartappar myndist ekki eins reyndin er í dag.
Bíll ársins...................................28
Getum dregið lærdóm af umferðinni í Covid-19
Rafskútur og umferðaröryggi. 30
Í langan tíma hafa aðilar sem koma að þessum skipulagsmálum ekki haft erindi sem erfiði. Þegar umferðin minnkaði í Covid-19 fór af stað umræða hvort ekki væri hægt að skipuleggja hlutina betur, gera umferðina skilvirkari með því markmiði að minnka umferðarþunga með öllum þeim töfum og slysahættu sem hann veldur. Í því sambandi var bent á hvort atvinnustarfsemi og skólar gætu hafið starfsemi sína seinna og með dreifðari hætti á morgnana. Margir fóru enn fremur að vinna meira heima og það létti á umferðinni. Við hljótum að geta dregið lærdóm af Covid-19.
Rannsókn á umferðarslysum...31 Rafbílavæðing á Íslandi............32 Vetnisbíll fór 1000 km..............34 Tvöföldun að verða tilbúin......35 Reynsluakstur: Renault ...........36 Reynsluakstur: Jeep Wrangler.38 Átak um notkun öryggisbelta. 43 Ökukennsla og rafbílar............44 Ryðvörn og viðhald..................46 Viðtal: Páll Heiðar Hauksson....48 Sundabraut og vegtollar..........50 700 milljónir í umferðaröryggi.52
6
Betra flæði og umferðarljósastýring
FÍB-blaðið
Undirritun á yfirlýsingu lagningu Sundabrautar gleðitíðindi Undirritun á yfirlýsingu lagningu Sundabrautar fyrr í sumar voru mikil gleðitíðindi og stórt skref sem mun tvímælalaust dreifa álagi, leysa umferðarhnúta og verður gríðarleg samgöngubót fyrir alla þá sem ferðast til og frá höfuðborgarsvæðinu. Gangi allar áætlanir eftir verður hún ekki tekin í notkun fyrr en eftir tíu ár. Þangað til verða borgaryfirvöld og Vegagerðin að finna lausnir svo að umferðin gangi betur en reyndin er í dag. Á fleiri þætti hefur verið bent á til að greiða fyrir umferð og má í því sambandi nefna umferðaljósastýringu. Umferðaljósastýring er afar brýn Fram hefur komið að markvisst er unnið að samtengingu umferðarljósa á höfuðborgarsvæðinu og miðlægri stýringu þeirra. Verkefnið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Í dag eru umferðarljós á um 205 gatnamótum og gangbrautum á höfuðborgarsvæðinu og eru þau langflest umferðarstýrð. Mörgum finnst þetta verkefni hefði mátt ganga hraðar fyrir sig en það mun án nokkurs vafa auka flæði og bæta öryggi í umferðinni. Öllum má vera ljóst að betur má duga skal í þessum efnum.
Jón Kristján Sigurðsson ritstjóri
Ferðabox og hjólafestingar
+354-520-8000
stilling@stilling.is
www.stilling.is
Bíldshöfði, Bæjarhraun, Selfoss og Akureyri
ÞÚ BORGAR
„VANDRÆÐALEGA GÓÐA AFKOMU“
„Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi jaðraði við að vera vandræðaleg,“ segir í verðmati Jakobsson Capital, sem vísar til þess að afkoman hafi verið langt yfir væntingum stjórnenda Sjóvár og greiningarfyrirtækisins. Þetta er úr frétt í Markaði Fréttablaðsins 8. júlí. Varla þarf mikið ímyndunarafl til að átta sig á hverjir standa undir þessari „vandræðalega góðu“ afkomu tryggingafélagsins. Það er allur almenningur og þó einkum bíleigendur sem mega þola hækkun iðgjalda langt umfram verðlagsþróun.
8
FÍB-blaðið
Og meira úr fréttinni: „Afkoma tryggingarekstrar kom mest á óvart,“ segir í verðmatinu. Hagnaður var af tryggingarekstri upp á 556 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi og samsett hlutfall 91,6 prósent. Greinandinn bendir á að fyrsti ársfjórðungurinn sé jafnan sá þyngsti í rekstri tryggingafélaga og því þurfi „óheppnin að elta Sjóvá“ ef spá félagsins um 92 prósenta samsett hlutfall á að ganga eftir. FÍB sagði frá því fyrir skömmu að iðgjöld ábyrgðartrygginga hafa hækkað um 38% frá 2015 en á sama tíma hækkaði verðlagsvísitala aðeins um 17%. Umferðarslysum hefur einnig fækkað, sem ætti í raun
að leiða til þess að iðgjöld ættu að hækka minna en almennt verðlag. Þess í stað hafa þau hækkað um helming. Tryggingafélögin fylgjast einatt að í okrinu á bíleigendum og má búast við að TM, Vörður og VÍS kynni einnig vandræðalega góða afkomu á fyrsta fjórðungi ársins. Og væntanlega mun „óheppnin“ ekki heldur elta þau það sem eftir lifir ársins, á arðvænlegustu fjórðungunum.
Straumurinn er í Öskju!
Yfir 30 gerðir rafmagnaðra bíla Askja býður glæsilegt úrval 100% rafbíla, tvinn- og tengiltvinnbíla frá Mercedes-Benz, Kia og Honda. Við erum sérfræðingar í rafbílum og svörum öllum þínum spurningum um allt sem þeim tengist. Kíktu í heimsókn — við tökum vel á móti þér.
Skoðaðu úrvalið á syningarsalur.askja.is
Sýningarsalur nýrra bíla Öskju á vefnum er alltaf opinn. Þar má sjá bíla sem eru til á lager eða eru væntanlegir.
Askja • Krókhálsi 11–13, 110 Reykjavík • 590 2100 • askja.is
FÍB-blaðið
9
Áhugaverður dómur í Noregi um akstursdrægni tengiltvinnbíls á raforku Héraðsdómur í Osló dæmdi nýverið Mitsubishi Motors í Noregi fyrir villandi auglýsingar varðandi akstursdrægni Mitsubishi Outlander tengiltvinnbíls á raforku.
á kaupverði bílsins upp á 20.000 norskar krónur sem gerir um 285.000 íslenskar krónur á núverandi gengi.
Úrskurðarnefndar í neytendakaupum á liðnum misserum um drægni rafog tengiltvinnbíla var hafnað.
Fordæmisgildi
Oslóarbúi keypti Mitsubishi Outlander af söluumboðinu Motor Forum fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Kaupin voru gerð á grundvelli þess að auglýst akstursdrægni bílsins dygði honum til að aka til og frá vinnu á rafmagni. Eftir að hafa fengið bílinn náði hann engan veginn þeirri drægni sem lofað var.
Þrátt fyrir að upphæð endurgreiðslunnar í dómnum sé ekki há gæti dómurinn haft verulegar afleiðingar og áhrif á markaðnum fyrir bílasala, bílainnflytjendur og neytendur sem kaupa hleðslubíla og rafbíla.
NAF telur dóminn jákvæðan fyrir neytendur
Kaupandinn kvartaði fyrst til Úrskurðarnefndar í neytendakaupum í Noregi sem úrskurðaði neytandanum í vil. Motor Forum undi ekki úrskurðinum og áfrýjaði til héraðsdóms. Lækkun á kaupverði Héraðsdómur í Osló komst að þeirri niðurstöðu líkt og Úrskurðarnefndin að Mitsubishi hafi veitt bæði villandi og rangar upplýsingar í auglýsingum og kynningargögnum þar sem fram kom að akstursdrægnin á rafmagni væri 54 kílómetrar. Héraðsdómur taldi rangar upplýsingar um drægni hafa haft veruleg áhrif á viðskiptin. Kaupandinn krafðist riftunar á kaupunum og endurgreiðslu á kaupverðinu gegn því að skila bílnum. Dómurinn féllst ekki á þá kröfu en dæmdi að kaupandinn ætti að fá endurgreidda lækkun 10
FÍB-blaðið
„Fáir úrskurðir hafa fallið varðandi akstursdrægni í Noregi og þess vegna er dómurinn jákvæður fyrir neytendur. Mikilvægt er að fá dóm sem segir að upplýsingar um drægni verði að vera raunhæfar,“ er haft eftir
Mitsubishi Motors var dæmt til að veita afslátt af kaupverði bíls þar sem bíllinn komst að hámarki aðeins 40 kílómetra á rafhleðslunni. Mitsubishi Motors auglýsti allt að 54 kílómetra akstursdrægni á raforku. Rangar og villandi upplýsingar er niðurstaða héraðsdóms Oslóar.
Í frétt NAF, systurfélags FÍB í Noregi, er haft eftir forstjóra Mitsubishi Motors í Noregi að þar á bæ sé ekki búið að taka endanlega ákvörðun um áfrýjun en að lögmenn fyrirtækisins séu að fara yfir dóminn. Óánægja viðskiptavina með drægni Margir rafbíla- og tengiltvinnbílaeigendur í Noregi hafa leitað til NAF og kvartað yfir akstursdrægni bíla sinna. NAF hefur í nokkrum tilvikum farið fram á endurgreiðslu eða afslátt fyrir hönd félagsmanna sem í flestum tilvikum hefur verið hafnað af söluaðilum. Fimm af sex kvörtunum til
Vigdis Svennungsen sem er í forsvari fyrir lögmannsstofu NAF. Ísland Íslensk lög um neytendakaup taka sérstaklega mið af norskum rétti og því má gera ráð fyrir að þessi dómur geti haft áhrif hér á landi. Mitsubishi Outlander PHEV hefur verið vinsælasti tengiltvinnbíllinn á íslenskum markaði á liðnum 5 árum. Hekla, umboðsaðili Mitsubishi á Íslandi, gefur upp 45 km akstursdrægni (WLTP) MMC Outlander Phev á raforku í bæklingi á netinu.
REXTON KONUNGURINN BESTU KAUPIN - FJÓRÐA ÁRIÐ Í RÖÐ Rex þýðir konungur. Sá titill hæfir þessum jeppa fullkomlega, enda hefur eitt virtasta fagrit bílamarkaðarins, �X� Magazine, krýnt Rexton sem jeppa ársins, auk þess að sæma hann bestu kaupin, fjögur ár í röð. Nýr Rexton hefur allt til að bera, hann er búinn fjölda nýjunga og er fjórhjóladrifinn, � manna, lúxusjeppi ‒ stolt eigenda sinna.
Til afhendingar strax.
Sjálfskiptur Rexton Premium: �.���.��� kr. Langtímaleiga: ���.��� kr. á mánuði*
ALVÖRU JEPPI
• KRAFTMEIRI • FLEIRI GÍRAR • LÆST AFTURDRIF • NÝ FJÖÐRUN
• Byggður á grind • Hátt og lágt drif
• Læstur millikassi • � manna
• � ára ábyrgð
• Sjálfstæð fjöðrun
*Innifalið í langtímaleigu: Þjónustuskoðanir, dekk og dekkjaskipti, bifreiðagjöld og tryggingar. Birt með fyrirvara um mynd- og textabrengl.
benni.is BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR SSANGYONG
Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330
Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080
Bílaríkið Akureyri Lónsbakka Sími: 461 3636
Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 FÍB-blaðið Sími: 590 2020
11
FÍB skírteinið er komið í símann Nú er boðið upp á þá nýjung að félagsmenn í FÍB geta fengið útgefið félagsskírteini á stafrænu formi í snjallsímann. Skráðir félagar í FÍB sem hafa greitt árgjald geta sótt um stafrænt FÍB skírteini hérna: www.fib.is/is/thjonusta/ gerast-felagi/stafraent Stafræna FÍB skírteinið er fyrir notendur með Android-síma og iOS-síma en eingöngu er hægt að setja félagsskírteinið upp á einu símtæki í einu. Ef það er sett upp á öðrum síma afvirkjast það í tækinu sem það var í áður. Notendum með Android-síma er bent á að sækja íslenska veskisappið SmartWallet fyrir bestu virknina. Ef nánari upplýsinga er þörf er hægt að hafa samband við skrifstofu félagsins með tölvupósti, fib@fib.is eða hringja í síma 414-9999. Frekari leiðbeiningar varðandi stafræna FÍB skírteinið má nálgast á heimasíðu FÍB Markmið FÍB með stafræna félagsskírteininu er að bæta þjónustu við félagsmenn. Með stafrænu FÍB skírteini er verið að draga úr plastnotkun og póstdreifingu sem er umhverfislega jákvætt. Þann sparnað má nýta til að efla þjónustu FÍB enn frekar.
12
FÍB-blaðið
HVAR & HVENÆR SEM ER Vefsýningarsalurinn okkar er alltaf opinn! Skoðaðu úrval bíla á lager & á leiðinni
Volkswagen Tiguan LIFE PHEV Verð 5.990.000
Á vefnum getur þú skoðað úrval bíla, séð hverjir eru til hjá okkur og hverjir eru væntanlegir til landsins. Þú getur líka auðveldlega sent inn fyrirspurn, tekið frá og pantað þér bíl. Einnig er að finna mikið úrval aukahluta fyrir bílstjóra, farþega og bílinn sjálfan, allt frá bílstólum og toppbogum til felgna og kaffibolla.
Komdu í heimsókn!
www.hekla.is/vefverslun Fylgdu okkur! @HEKLA www.hekla.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000
FÍB-blaðið
13
Þjónusta við vetnisknúna bíla er ekki eins og best verður á kosið Í maí 2019 breyttist bensínstöð Orkunnar norðan Miklubrautar í fyrstu fjölorkustöð landsins þar sem ökumenn og aðrir notendur gátu keypt nær alla endurnýjanlega orkugjafa sem framleiddir eru til samgangna hér á landi auk hefðbundins jarðefnaeldsneytis. Um sögulegan atburð var að ræða í orkusölu landsins því að í fyrsta skipti mátti gera slíkt á sömu áfyllingarstöðinni. Miklar vonir voru bundnar við opnun þessarar stöðvar og þótti hún marka ákveðið upphaf og framfaraspor að margra mati. Metangasið kom frá urðunarstað Sorpu í Álfsnesi, hraðhleðsla fyrir rafmagns- og tengiltvinnbíla frá Orku náttúrunnar (ON) og þá var hægt að fá vetni sem ON framleiðir með rafgreiningu í Hellisheiðarvirkjun. Fjölorkustöðin við Miklubraut var samstarfsverkefni sem hafði verið í undirbúningi um langt skeið og Evrópusambandið styrkti um tvær milljónir evra.
Þjónustan ekki nógu góð Nú eru breyttir tímar því að fjölorkustöðinni við Miklubraut hefur verið lokað og hafa eigendur vetnisbíla aðeins aðgang að vetni fyrir bílana á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni, annars vegar á Vesturlandsvegi í Reykjavík og við Fitjar í Reykjanesbæ hins vegar. Það er ljóst að þjónustan við vetnisknúna bíla er ekki eins og best verður á kosið. Hvað veldur því og hvað ber framtíðin í skauti sér? Hjá Orku náttúrunnar fengust þær upplýsingar að fyrirtækið framleiði vetni við Hellisheiðarvirkjun og selji í smásölu til Íslenska vetnisfélagsins (ÍV), dótturfélags Skeljungs. „Vetnisframleiðslan á Hellisheiði hefur gengið vel en framleiðsla hófst af alvöru seinni hluta ársins 2020. Covid– takmarkanir settu strik í reikninginn varðandi áfyllistöðvarnar. Óvæntar rekstrarstöðvanir drógust á langinn þar sem skortur var á þjálfuðum mannskap í þau verk og bíða þurfti eftir erlendum aðila til að sinna þeim. ÍV er nú búið að þjálfa aðila og ætti því að vera minna um niðurtíma vegna viðhalds. Undanfarið hefur samstarf ON og ÍV gengið vel og eins og staðan er í dag þá annar
framleiðslan vel þeirri eftirspurn sem er til staðar,“ segir Hólmfríður Haraldsdóttir sérfræðingur í orkumiðlun hjá Orku náttúrunnar. Framboð af bílum og vetnisstöðvum þarf að haldast í hendur Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á Íslandi, var spurður hvernig gengi almennt fyrir eigendur vetnisbíla að nálgast og fá vetni á bílana sína og hvað mætti betur fara í þessum efnum? „Núna eru tvær vetnisstöðvar starfræktar, í Reykjavík og Reykjanesbæ. Eigendur vetnisbíla hafa því ekki enn sem komið er eins greiðan aðgang að orku og eigendur annarra bíla. Framboð af bílum og vetnisstöðvum þarf að haldast í hendur. Vetnisbílarnir eru fáir og þó stöðvarnar séu aðeins tvær gætu þær sinnt margfalt fleiri bílum en eru í umferð,“ sagði Páll. – Hvað með framboðið á vetnisbílum. Nægir það og er áhugi enn fyrir hendi hjá umboðinu varðandi þessa bíla? „Okkur hjá Toyota finnast vetnisbílar vera mjög spennandi kostur því að þeir geta sinnt eftirspurn eftir rafmagnsbílum og hafa ýmislegt fram yfir venjulega rafmagnsbíla. Vetnisbílar eru í grunninn venjulegir rafmagnsbílar að því frátöldu að búið er að taka út hleðsluþáttinn og flýta fyrir með því að búa til vetni með rafgreiningu sem svo aftur er breytt í rafmagn í bílnum sjálfum. Þannig sparast sá mikli tími sem fer í að hlaða rafbíla því að einungis tekur nokkrar mínútur að fylla bílinn af vetni.“ — Hver er sýn Toyota á framtíð vetnisbíla og þjónustu við vetnisbílaeigendur?
14
FÍB-blaðið
„Við sjáum ekki annað en að úrval vetnisbíla muni aukast, sérstaklega í stærri bílum, strætisvögnum, rútum og vöruflutningabílum en einnig í stærri fólksbílum,“ sagði Páll Þorsteinsson.
100% rafdrifinn MG ZS EV Luxury
Langtímaleiga FLEX aðeins 79.990 kr. á mánuði Með langtímaleigu FLEX er allt innifalið fyrir almennan rekstur bílsins: Dekk, ábyrgðarskoðun, þjónustuskoðanir og tryggingar. Um er að ræða 36 mánaða leigu með inniföldum 18.000 km akstri á ári. Hafðu samband við okkur og kynntu þér langtímaleigu á nýjum MG. Verð á MG ZS EV Luxury: 4.590.000 kr.
Nýr og glæsilegur MG ZS EV Luxury er 100% rafdrifinn 5 manna fjölskyldubíll. Rafhlaðan er 44,5 kWh og drægni er 263 km (WLTP-prófun). Tekur við allt að 85 kW hraðhleðslu. Meðal staðalbúnaðar í MG ZS EV eru sjálfvirk há/lág aðalljós, skynvæddur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun, akreinavari og akreinastýring, E-Call neyðarhringing og leiðsögukerfi með Íslandskorti. Aukabúnaður í Luxury: bakkmyndavél, blindhornsviðvörun, upphituð framsæti, opnanlegt glerþak, regnskynjari, brekkubremsa, 17" álfelgur, 6 hátalarar o.fl. Verið velkomin í reynsluakstur! Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533
Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070
BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516
Bílasala Reykjaness Reykjanesbæ www.bilasalareykjaness.is 419 1881
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is FÍB-blaðið
15
Takmarkandi er að aðgangur að vetni sé hvergi nema á suðvesturhorninu Heiðar Jón Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, segir að nú sé ágætt að eiga við það að fylla á vetni. Tvær stöðvar séu virkar, Fitjar og Vesturlandsvegur. Það er handhægt að dæla og á færi allra almennra notenda. Þó er takmarkandi að aðgangur að vetni er hvergi annarstaðar á landinu. Þetta skýrist líklega af því að uppbygging er dýr en viðbúið er að innviðir muni líklega vaxa með aukinni notkun. „Fram til þessa hefur einungis verið í boði að kaupa fólksbíla eða jepplinga á Íslandi. Við hjá Hyundai á Íslandi höfum átt vetnisbíl á lager frá 2018. Hyundai hefur sett mikla vinnu í þróun á rafbílum. Við bjóðum í dag upp á vöruflutningabíla, strætisvagna, rútur og fólksbíla. Hyundai á Íslandi hefur menntað fólk í þjónustu við vetnisbíla og mun viðhalda þeirri þekkingu og þjónustu að óbreyttu,“ sagði Heiðar Jón Sveinsson hjá Hyundai. Ekki gott í svona frumkvöðlaverkefni Aðspurður hvort einhver vandræði hafi verið varðandi áfyllingu á vetnisbílana sagði Heiðar ekki hafa frétt af neinum vandræðum með slíkt þegar stöðvarnar eru að fullu virkar. „Komið hefur upp að vetnisdælurnar hafi bilað og eins stundum gengið illa að fylla tankinn. Það er að sjálfsögðu bagalegt og ekki til framdráttar í svona frumkvöðlaverkefni. Ég tel að verið sé að vinna við að bæta,“ sagði Heiðar.
Hvað er vetni? Hvað er vetni? Vetni er lofttegund sem er til staðar í miklu magni í alheiminum en á jörðu fyrirfinnst hún að mestu leyti í vatni og lífrænum efnasamböndum. Nýta má vetni til að knýja bíla en þá þarf hreint vetni til að setja á þá. Ein leið til að framleiða vetni er með rafgreiningu vatns sem skilur að vetni og súrefni úr vatnssameindunum. Rafgreining er orkufrek og byggir á raforkunotkun en að loknu framleiðsluferlinu er vetninu safnað saman og geymt á þrýstihylkjum sem orkuberi rafmagns í sama skilningi og rafhlöður. Þar sem rafmagn á Íslandi er framleitt með endurnýjanlegum orkugjöfum er vetni framleitt hér einnig endurnýjanlegt. Vetnisbílar eru líkir rafbílum að því leyti að þeir innihalda rafmótor sem knýr bílinn áfram. Í vetnisbíl er rafgeyminum sem orkubera skipt út fyrir vetnisþrýstihylki og við bætist efnarafall. Í efnarafal er rafmagn og vatn framleitt úr efnaorku sem losnar við efnahvarf vetnis og súrefnis. Raunar er hægt að brenna vetninu í sprengihreyflum líkt og bensíni en vegna þess hve dýrt er að framleiða vetnið er yfirleitt horft til efnarafala sem hafa um 2,5 sinnum betri orkunýtingu en sprengihreyflar. Erlendir bílaframleiðendur hafa mikla trú á vetni til frambúðar Erlendir bílaframleiðendur hafa mikla trú á vetni til frambúðar og hafa nokkrir þeirra hafið samstarf á þessu sviði. Daimler Truck AG og Volvo Group eru í samstarfi um framleiðslu á eldsneytiskerfi fyrir ökutæki sem nota vetni til eldsneytis. Eldsneytiskerfið er einkum hugsað fyrir stóra vetnisknúna atvinnubíla sem ætlaðir eru til lengri ferðalaga. Þessir tveir stóru bílaframleiðendur hafa stofnað til samstarfs um þessa þróunarvinnu og kallast hún cellcentric. Sérfræðingar eru fullvissir um að þegar eftirspurn eftir vetni eykst og smásölumarkaðir þróast fari
Vetnisbíllinn Hyundai Nexo hefur verið í boði hér á landi frá 2019.
hleðslustöðvar fyrir vetni einnig í fjöldaframleiðslu og muni það lækka dreifingarkostnað og verð. Í umfjöllun í FÍB–blaðinu um vetnisknúnar bifreiðar á síðasta ári kom fram að mikil þróun er í framleiðslu efnarafala og hefur Toyota gefið út að bílar með slíkan búnað verði orðnir ódýrari en bæði rafhlöðu- og brennsluvélabílar árið 2025 þrátt fyrir miklar framfarir í þróun drifrafhlaðna. Vetnisbílar hafa átt undir högg að sækja Einnig ætlar suður–kóreski bílaframleiðandinn Hyundai ekki að láta deigan síga í framleiðslu á vetnisbílum á næstu árum ef marka má markmið fyrirtækisins og í yfirlýsingu skömmu fyrir síðustu áramót. Þar segir að vetnisbílar hafi átt undir högg að sækja á
Önnur kynslóð af vetnisbílnum Toyota Mirai kom á markað 2020
síðustu árum en markmið Hyundai er að snúa þeirri þróun við og framleiða 700 þúsund vetnisbíla á næstu tíu árum. Forvígismenn Hyundai segjast hafa mikla trú á vetnisbílum sem eru um margt hagstæðari í rekstri en venjulegir rafbílar. Fyrirtækið segir fjárfestinguna gríðarlega mikla en með bjartsýni að vopni er hægt að komast langt. Kínversk stjórnvöld hafa uppi áform að styðja meira við framleiðslu á vetnisbílum en gert hefur verið fram til þessa. Innleiða á nýja stefnu sem hefur það markmið að hvetja neytendur til að kaupa þessa bíla. Kína er langstærsti markaðurinn fyrir nýorku-, tengiltvinn- og vetniseldsneytisrafbíla í heiminum.
er erstjarna stjarnaííbílrúðuNNi? bílrúðuNNi
Við leysum vandaNN þér að kostnaðarlausu Bílrúður - Bílalakk
Stórhöfða 37
bilrudur.is
Keyrðu í drullupolla! Við gerum veiðiferðina betri og þrífum fyrir þig jeppann
biladekur.is - HólmaslóðFÍB-blaðið 12, S: 780-0000 17
Hvernig er hreinsun gatna háttað? Síðasti vetur var óvenju snjóléttur og af þeim sökum þurfti ekki að bera mikið salt á götur. Það sama má almennt segja um gönguleiðir en alla jafnan er borinn sandur á þær í hálkutíð sem minna þurfti síðasta vetur sökum hagstæðs tíðarfars. Svifryk fer stundum yfir heilsuverndarmörk á mælistöðvum Umhverfisstofnunar á höfuðborgarsvæðinu og hefur verið bent á ýmsar ástæður sem valda því. Í því sambandi má nefna nagladekkjanotkun og eins að gatnakerfið sé ekki nógu vel þrifið. Þess má geta að hjá Akureyrarbæ hefur verið sett á laggir verkefni
við síðustu fyrirspurninni svaraði Gylfi Ástbjartsson, verkefnastjóri skilmálaeftirlits byggingarfulltrúa á Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur. Svar við fyrirspurninni: Alla jafnan hefst vorhreinsun í kringum 1.apríl, en það fer þó eftir veðri og aðstæðum hverju sinni, hvenær hægt er að byrja. Í vetur hefur veðurfar verið okkur hagstætt og höfum við farið aukaferðir á margar af stofn- og tengibrautum sem tilheyra Reykjavík. Ég veit líka til þess að Vegagerð hafi gert slíkt hið sama á þjóðvegum í
Fyrirspurnin FÍB til Reykjavíkurborgar Hvernig er hreinsun gatna háttað í Reykjavík árið um kring? Eru sérstakar viðbótarráðstafanir í gangi til að draga úr svifryki þegar loftgæði versna? Fram kemur á heimasíðu Reykjavíkurborgar að vorhreinsun hefjist í öllum hverfum i apríl. Nú í vetur hafa oft verið skilyrði til hreinsunar helstu gatna á höfuðborgarsvæðinu vegna hagstæðs veðurfars. Loftgæði hafa oft verið slök í vetur vegna svifryks. Hafa borgaryfirvöld aukið við gatnahreinsun vegna þessara ástæðna í vetur? Er til aðgengileg tölfræði um hreinsun og samanburður á milli ára? Eru í gildi reglur sem falla væntanlega undir umhverfiseftirlit Reykjavíkurborgar um viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir fok og efnisburð frá framkvæmdasvæðum þar sem unnið er að mannvirkjagerð? Þarna er átt við vatnsúðun, rykbindingu, yfirbreiðslur og aðrar ráðstafanir til að koma í veg fyrir fok á rokgjörnum efnum, m.a. frá efnishaugum. Einnig koma til reglur varðandi hreinsun vinnuvéla, vatnsúðunarbúnað á tækjum, hreinsun hjólbarða malarflutningatækja og yfirbreiðslu farma. þar sem kanna á uppruna og efnasamsetningu svifryks á götum bæjarins. Markmiðið er að finna bestu aðferðir til að útrýma því. Þegar hreinsun gatna hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er könnuð er sú framkvæmd unnin með svipuðum hætti hjá flestum þeirra. FÍB sendi fyrirspurn til Reykjavíkurborgar og svaraði henni Björn Ingvarsson, deildarstjóri hjá Þjónustumiðstöð borgarlandsins. Spurningunni 18
FÍB-blaðið
þéttbýli, sem er sinnt af Vegagerð. Held að þau hafi tekið aukaumferð á allar sínar götur. Vorhreinsun gatna fer þannig fram að í upphafi er farið í stofn- og tengibrautir og þær sópaðar. Að því loknu, eða í kringum 1. maí, er farið í húsagötur, þær forsópaðar, síðan sópaðar og þvegnar. Vorhreinsun getur verið að taka okkur í kringum 8–12 vikur, eftir veðurfari. Nokkru síðar eða í kringum 1-15. júní hefst sumarhreinsun, þar sem farið er
aftur yfir stofn- og tengibrautir, þær þvegnar og sópaðar. Sumrinu síðan leyft að líða og í kringum 1.október er farin ein umferð til viðbótar á stofn- og tengibrautir, sem og húsagötur, þ.e. hausthreinsun. Á endanum er áætlun þannig að stofn- og tengibrautir eru hreinsaðar þrisvar á ári, húsagötur eru hreinsaðar tvisvar á ári en allar götur eru jafnframt þvegnar einu sinni á ári. Sé veðurfar hagstætt að vetri til, höfum við verið að fara eina umferð til viðbótar á valdar stofn- og tengibrautin, þær sem við teljum að helst geti valdið okkur erfiðleikum vegna svifryks. Ef loftgæði fara yfir ákveðin mörk, kallar Heilbrigðiseftirlit út í rykbindingu, sem Reykjavíkurborg sinnir. Helst er þó verið að rykbinda þjóðvegi í þéttbýli, enda mesta og hraðasta umferðin á þeim götum og þær því okkar helsta vandamál er kemur að svifryksmengun. Rykbinding er unnin í góðri samvinnu Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Heilbrigðiseftirlitsins. Vegna hagstæðra veðurskilyrða í vetur, bættum við einni umferð sópunar við á þó nokkrar stofn- og tengibrautir í vetur. … Auk þess fórum við tvisvar sinnum í rykbindingu í vetur. Ég er ekki með aðgengilega tölfræði sem ég get dregið fram eins og er. Ekki er, enn sem komið er, hægt að fara aftur í tímann í Borgarvefsjá þegar kemur að hreinsun, en það er von mín að svo verði einhvern tíma, enda afar góð heimild um hina ýmsu vinnu sem unnin er af Reykjavíkurborg. Það er ekki langt síðan við fórum að auka við hreinsun vegna hagstæðra veðurskilyrða og þau hafa aldrei verið jafn góð og síðasta vetur. Það var því farið fjórum sinnum í óvenju margar götur þennan vetur.
Reglur varðandi framkvæmdasvæði eru að við niðurrif húsa er krafist þess að notaður sé vatnsúði á tækjum til niðurrifs til að halda rykmengun í lágmarki. Varðandi hreinsun vinnuvéla og hjólbarða malarflutningatækja eru eftirfarandi skilyrði í öllum byggingarleyfum sem gefin eru út: „Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð ská haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.“
Hvað varðar yfirbreiðslur á vörubílum verð ég að vísa til umferðarlaga og veit að lögreglan framfylgir því að farmur sé öruggur (þ.m.t. að hann dreifist ekki á götur). Varðandi malarhauga kannast ég ekki við sérstakar reglur vegna þeirra en veit að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur veitir starfsleyfi vegna malarvinnslu og þar er tekið á rykmengun o.fl. Vegagerðin var sömuleiðis innt eftir því hvernig hreinsun gatna á stofnbrautum er háttað á höfuðborgarsvæðinu árið um kring af hennar hálfu? Þau svör fengust að undanfarin ár hafa verið farnar fjórar sópumferðir á höfuðborgarsvæðinu. Á vorin fer síðan fram þvottur á gatnamótum og hellulögnum sérstaklega.
Kópavogur Hjá Kópavogsbæ fengust þær upplýsingar við fyrirspurn FÍB hjá Birki Rútssyni, deildarstjóra Gatnadeildarm að götur séu hreinsaðar að vorlagi frá því að veðuraðstæður leyfa og fram eftir sumri. Við sérstök tilfelli, s.s. ef framkvæmdir hafa orsakað óþrifnað á götum, hefur verið kölluð út viðbótarhreinsun Eru sérstakar viðbótarráðstafanir í gangi til að draga úr svifryki þegar loftgæði versna? Þegar aðstæður leyfa, þ.e. frostleysi, hefur verið kölluð út götuhreinsun. Rykbinding með magnesíumklóríð hefur ekki verið notuð í Kópavogi þar sem efnið bindur laust efni í götuköntum sem orsakar að erfiðlega gengur að hreinsa það í burt þegar frost leysir, með öðrum orðum er einungis vera fresta svifryksmengun til vors með að nota efnið. Einnig hefur ekki verið sýnt fram á að magnesíumklóríð sé hættulaust lífríki en efnið mun á endanum skolast út í það eftir regnvatnslögnum. Hvenær hefst vorhreinsun gatna í hverfum í Kópavogi? Nú í vetur hafa oft verið skilyrði til hreinsunar helstu gatna vegna hagstæðs veðurfars. Loftgæði hafa oft verið slök í vetur vegna svifryks. Vorhreinsun hefst strax og frost leysir. Í ár var hægt að byrja í fyrri hluta mars en tekið hlé þegar frysta tók að nýju seinni hluta mars. Vorhreinsuninni er haldið áfram nú og mun halda áfram þangað til henni er lokið um það bil í upphafi júní. Hafa stjórnvöld í Kópavogi aukið við gatnahreinsun vegna þessara ástæðna í vetur? Í Kópavogi hefur verið aukin notkun á háþrýstiþvotti á umferðarmestu götunum síðustu tvö árin. Er til aðgengileg tölfræði um hreinsun og samanburður á milli ára? Allar götur og allir stígar eru hreinsaðir á hverju ári og væri sú tölfræði ávallt 100% eða sem næst því. Engin önnur tölfræði er til en fjárhagsheimild til hreinsunar hækkar sem nemur hækkun launavísitölu og vísitölu 72 – rekstur bifreiða og tækja á hverju ári.
Hafnarfjörður Helga Stefánsdóttir, forstöðumaður umhverfis- og framkvæmda hjá Hafnarfjarðarbæ, segir að tveir umsjónaraðilar gatna séu í Hafnarfirði, þ.e.a.s. bærinn og Vegagerðin. Vegagerðin sér um hreinsun á eigin götum. Götur á vegum Hafnarfjarðarbæjar eru sópaðar 2 sinnum á ári: Við fyrsta tækifæri á vorin, yfirleitt um miðjan apríl, og aftur að hausti. Þá er reynt að sópa sem næst vetri til að ná sem mestu dauðu laufi. Einnig eru aðalgötur sópaðar um 5 sinnum á ári þegar tækifæri gefst um vetur, ásamt tilfallandi sópun. Öll bílastæði eru sópuð að vori og eyjar háþrýstiþvegnar. Yfir vetrartíma er notað salt og saltpækil á götur til hálkuvarnar og um leið svifryksvarnar. Vorhreinsun í Hafnarfirði hófst um miðjan apríl. Bænum er skipt upp í 14 hverfi og eitt hverfi er tekið á hverjum virkum degi. Aðalgötur eru sópaðar samhliða hverfissópun og stefnt er á að þær verði einnig háþrýstiþvegnar. FÍB-blaðið
19
Úrvinnslugjald á drifrafhlöður rafbíla – stenst það lög? Framleiðandaábyrgðin er skýr innan evrópska efnahagssvæðisins hvort sem ökutækið er flutt inn af bílaumboði, bíleiganda sjálfum eða lögaðila sem flytur inn og selur. Þetta á við óháð því hvort ökutækið er framleitt í Evrópu eða annarri heimsálfu en gerðarviðurkennt til notkunar í Evrópu. Kanna þarf nánar ábyrgð framleiðenda vegna ökutækja sem innflutt eru ,,fram hjá“ umboðum frá þriðju löndum sbr. 19. gr. tilskipunar ESB 2006/66/EB. Neytendur hafa borgað úrvinnslu á drifrafhlöðum rafbíla við kaup á ökutækinu enda framleiðendur búnir að gera ráð fyrir þeim kostnaði í heildsöluverði þeirra ökutækja sem þeir framleiða. FÍB skorar á Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra að endurskoða þessa málsmeðferð. Noregur – meðferð drifrafhlaðna eftir að akstursnotkun rafbíls líkur
Á síðasta þingi var til meðferðar mál nr. 708: Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. EES-reglur og hringrásarkerfi. Umsagnarbeiðnir voru sendar á bæjar- og sveitarfélög, opinbera aðila og samtök innan atvinnulífsins. Samtök neytenda fengu ekki umsagnarbeiðni. Málið var samþykkt sem lög í byrjun sumars. Sett var inn ákvæði um úrvinnslugjald á drifrafhlöður rafbíla með það að markmiði að ná utan um endurvinnslu og endurnýtingu þeirra. Drifrafhlöður eru rafhlöður og rafgeymar sem geyma orku til að knýja ökutæki áfram. Þetta ákvæði var í samræmi við tillögur starfshóps umhverfisráðherra um framkvæmd framleiðendaábyrgðar á rafhlöðum og rafgeymum sem skilaði af sér áliti fyrir rúmu ári síðan.
Það verður fyrir rest að farga hverjum einasta bíl. Í Noregi annast fyrirtæki norskra bílainnflytjenda, Autoretur, móttöku, endurvinnslu og frágang ökutækja eftir að akstursnotkun líkur.
Í tilskipuninni segir í 8. gr. lið 4: . Aðildarríkin skulu sjá til þess að framleiðendur rafhlaðna og rafgeyma fyrir vélknúin ökutæki, eða þriðju aðilar, komi á kerfum til söfnunar á notuðum rafhlöðum og rafgeymum fyrir vélknúin ökutæki frá notendum eða frá aðgengilegri söfnunarstöð í nágrenni þeirra ef þeim er ekki safnað samkvæmt kerfunum sem um getur í 1. mgr. 5. gr. tilskipunar 2000/ 53/EB. Þegar um er að ræða rafhlöður og rafgeyma fyrir vélknúin ökutæki sem koma frá vélknúnum ökutækjum sem eru í einkaeigu og eru ekki notuð í atvinnuskyni skulu slík kerfi hvorki fela í sér gjald af hálfu notenda þegar þeir fleygja notuðum rafhlöðum eða rafgeymum né skyldu til að kaupa nýja rafhlöðu eða rafgeymi.
Í starfshópnum sátu Ágústa Steingrímsdóttir, tilnefnd af Samtökum verslunar og þjónustu, Brynjar Elefsen Óskarsson, tilnefndur af Bílgreinasambandinu, Íris Gunnarsdóttir, tilnefnd af Úrvinnslusjóði, Margrét Bragadóttir, tilnefnd af Umhverfisstofnun, og Tryggvi Guðbjörn Benediktsson, tilnefndur af Félagi atvinnurekenda. Guðmundur B. Ingvarsson, tilnefndur af umhverfis– og auðlindaráðuneytinu, stýrði starfshópnum. Engin fulltrúi neytenda átti aðild að hópnum en FÍB gat sent inn stutt álit um tillögur hópsins. Athygli vekur að af sex fulltrúum koma þrír frá samtökum í atvinnulífinu en þeir starfa allir sem stjórnendur hjá bílaumboðum. Samkvæmt því sem FÍB kemst næst stendur til að hefja innheimtu á úrvinnslugjaldi af drifrafhlöðum rafbíla 1. janúar 2023. FÍB gerir alvarlegar athugasemdir við þessa framkvæmd og telur að þarna sé verið að leggja ný gjöld á neytendur sem þegar hafa borgað þetta vegna framleiðendaábyrgðar bílaframleiðenda í samræmi við tilskipun ESB 2006/66/EB sem Alþingi hefur þegar innleitt.
Tiltölulega fáar drifrafhlöður úr rafbílum eru að skila sér inn í endurvinnslu í Noregi þrátt fyrir að engin þjóð selji hlutfallslega fleiri rafbíla en Norðmenn. Innan fárra ára gera þeir ráð fyrir að umtalsvert magn drifrafhlaðna muni skila sér inn til endurvinnslu. Aðrar kröfur eru varðandi meðhöndlun og frágang bíladrifrafhlaðna samanborið við startgeyma. Til að mæta þessu er Autoretur í samstarfi viðBatteriretur um úrvinnslu rafbíla og tvinnbíla. Forvígismenn Batteriretur segja að endurvinnsluhlutfall sé mjög hátt í drifrafhlöðum. Efnin í þeim eru endurnýtt og hluti af rafhlöðunum fær annað hlutverk. Drifrafhlaða getur enn verið með umtalsverða rýmd þótt hún sé ekki fullnægjandi til að knýja bíl. Þessar bílarafhlöður má nýta fyrir orkugeymslu og aflstöð fyrir t.d. heimili eða frístundahús. Hægt er að safna orku inn á rafhlöðurnar til geymslu með sólarsellum eða þegar raforkuverð er hagstætt.
FÍB mælir með...
Orkuhringnum Íslendingar eiga heimsmet í mörgu. Í það minnsta teljum við okkur trú um það og trúlega með réttu. Við leiðum ef til vill ekki alltaf huga að því heimsmeti okkar sem blasir við á hverjum degi. Þá er auðvitað átt við raforkuframleiðslu okkar, þ.e. framleiðslu rafmagns með vatns- og jarðvarmaorku. Hún er sú langmesta sem um getur í heiminum miðað við hina frægu höfðatölu. Einnig getum við státað okkur af því að orkuframleiðsla okkar sé sú hreinasta sem um getur því að langstærsti hluti orkuframleiðslu landsins kemur frá endurnýjanlegum hreinum orkugjöfum eða yfir 99% skv. Orkustofnun. Jarðefnaeldsneytisnotkun kemst vart á blað hjá okkur þegar kemur að notkun þess til raforkuframleiðslu. Því er ekki úr vegi að leiða hugann að þessum landsins gæðum og hugsa um þau um leið og ferðast er um landið okkar bláa. FÍB hvetur landsmenn til að velta fyrir sér orkunni sem við eigum, ekki síst nú þegar innan við níu ár eru uns stórt skref verður stigið í orkuskiptum í samgöngum á landi þegar bann á innflutningi jarðeldsneytisbíla verður staðreynd og rafmagnið, heimafengin orka, verður trúlega aðalorkugjafi í samgöngum okkar og komandi kynslóða.
Hellisheiðarvirkjun Sé ekið frá höfuðborgarsvæðinu austur Hringveginn áleiðis að Hellisheiði er komið að Hellisheiðavirkjun sem Orkuveita Reykjavíkur rekur, eftir um 30 mínútna akstur. Hún er stærsta jarðvarmavirkjun á Íslandi og var ein sú stærsta í veröldinni þegar henni var hleypt af stokkunum 2006. Virkjunin framleiðir ósköpin öll af rafmagni sem hleypt er inn á dreifikerfið, í raun nógu miklu fyrir nánast allt höfuðborgarsvæðið en auk þess sér hún okkur fyrir drjúgum hluta af því heita vatni sem höfuðborgarsvæðið notar, ásamt reyndar Nesjavallavirkjun sem er hinum megin í Henglinum. Hellisheiðarvirkjun er mikið mannvirki og þangað eru gestir og gangandi boðnir velkomnir í heimsókn. Jarðhitasýningin, sem hægt er að skoða, er verulega fróðleg og sömuleiðis aðgengileg og hægt að nálgast hana með leiðsögn gegn gjaldi eða á eigin vegum. Segja má að sýningin hefjist þegar við komuna heim að virkjunarhúsinu en ekki er endilega víst að því sé veitt eftirtekt. Hönnun framhliðar hússins er með þeim hætti að sá hluti virkjanahússins sem blasir við hefur skírskotun til flekaskilanna sem eru alfa og ómega í jarðfræði Íslands og einnig þess hvernig jarðlagastaflarnir, sem hlaðist hafa upp í gegnum milljónir ára, halla inn að skilunum.
Hellisheiðarvirkjun er staðsett sunnan við Hengil og framleiðir heitt vatn og rafmagn. Virkjunin var gangsett árið 2006 og er uppsett afl 200 MW í varmaafli og 303 MW í rafmagni. Í magni talið eru þetta um 950 lítrar á sekúndu. Allt umfram jarðhitavatnið rennur að jafnaði í niðurrennsliskerfi niður fyrir grunnvatnskerfi í jarðhitageyminn. Lofthreinsistöð er staðsett við virkjunina og nýtir hún Carbfix–aðferðina til að hreinsa um 75% af brennisteinsvetni og um 30% af koltvísýringi sem leyst eru upp í jarðhitavatni og veitt í niðurrennsliskerfi. Heimild ON.is 22
FÍB-blaðið
Gott er að gefa sér klukkustund eða svo til að skoða jarðhitasýninguna í Hellisheiðarvirkjun og þar er gott aðgengi að salernum og hægt að verða sér út um hressingu í venjulegu árferði. ON virðist ætla að stíga varlega til jarðar við opnun sýningarinnar og bíða af sér alla hættu vegna covid en opnar þegar það verður óhætt. Að sjálfsögðu er að finna hleðslustöðvar við Hellisheiðarvirkjun fyrir rafmagnsbíla. Þegar haldið er áfram austur yfir Hellisheiði er líklegt að einhverjir leiði hugann að hinni fleygu setningu sem höfð er eftir Snorra goða Þorgrímssyni og færð okkur í Kristni sögu: „Um hvað reiddust goðin þá hér brann hraunið, er nú stöndum vér á.“ Þetta á hann að hafa mælt á þinginu árið 1000 (eða 999 segja sumir) þegar inn á Alþingi var flutt sú frétt að jarðeldur væri upp kominn í Ölfusi og rynni ofan Hellisheiði. Túlkuðu menn sem börðust gegn kristnitökunni að goðin væru að lýsa skoðun sinni á hugmyndum um að kasta hinum heiðna sið og taka upp kristni. Hvað sem þessu líður er ljóst að leiðin „austur fyrir fjall“ hefur verið vettvangur fjölmargra jarðelda sem í raun sér alls ekki fyrir endann á ef marka má vísustu fræðimenn okkar. Ferðinni er haldið áfram í þann „orkuhring“ sem hófst í Hellisheiðarvirkjun. Ekið er yfir Ölfusárbrú og þar með yfir það vatnsfall sem hefur mest meðalrennsli allra vatnsfalla hér á landi, myndað úr annars vegar Hvítá og hins vegar Soginu. Við erum meðvituð um orkuna í Ölfusá og einnig að hluti vatns hennar kemur úr Soginu og rekur uppruna sinn til Þingvallavatns með viðkomu í Sogsvirkjununum þremur og gert þar skyldu sína í rafmagnsframleiðslu.
Frá aldaöðli hefur netaveiði verið stunduð í Þjórsá en hún tilheyrir hlunnindum tiltekinna jarða. Fyrir um fjórum árum náðist samkomulag um að fækka netum í Neðri–Þjórsá og glæða með þeim hætti stangveiði í Urriðafossi. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og mikið sést af laxi í og við fossinn. Sannarlega er ekki einfalt að veiða fiskinn en smám saman skapast veiðireynsla og þekking. Ferðalangar, sem leggja leið sína að útsýnispalli við fossinn, eru hvattir til að sýna stangveiðimönnum nærgætni og skilning. FÍB-blaðið
23
Við erum þó á leið austar, alla leið að annarri vatnsmikilli á, Þjórsá. Þjórsá er lengst íslenskra áa og telst vera um 230 km löng frá upptökum í Hofsjökli og til sjávar. Hún er æði straumþung og vatnsmikil og var okkur kennt í skóla í gamla daga að hún væri önnur vatnsmesta á landsins, næst Ölfusá. Sé ekið niður með Þjórsá rétt áður en komið er að Þjórsárbrú kemur fljótlega að Urriðafossi, því ægifagra vatnsfalli sem er einn vatnsmesti foss á Íslandi. Fossinn er mikill að breidd og verður til er áin steypist fram af hrauni því sem heitir Þjórsárhraun. Urriðafoss er örskammt frá þjóðvegi 1 en samt er hann ekki mikið sóttur áfangastaður og full ástæða til að bæta úr því. Yfir sumartímann má sjá þar stangveiðimenn við iðju sína. Veiði þykir góð í Urriðafossi og má segja að unun sé að horfa í fossinn þegar lax gengur upp hann því að oft má sjá fleiri en einn lax á lofti í einu að spyrna sér upp flúðirnar og fossinn. Vart sér högg á vatni þótt veiðimenn slíti einn og einn úr ánni áður en þeir geta fullkomnað ætlunarverk sitt og komist upp fossinn. Margir bera beyg fyrir því að Urriðafoss muni láta undan gangi virkjunaráform eftir þar. Slík áform hafa reyndar verið uppi frá því á þriðja áratug síðustu aldar en ekki varð af þeim þá en nú eru býsna afdráttarlausar hugmyndir komnar fram sem eru í rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða en þó í biðflokki svo að það sé tekið fram.
Orkuframleiðsla Íslendinga er mikil. Rétt tæplega 80% af raforkuframleiðslunni fer til stóriðju sem er hin eiginlega þriðja stoð undir hagkerfi Íslendinga, næst á eftir sjávarútvegi og ferðaþjónustunni (þegar allt leikur í lyndi). Hlutfall vatnsorkunnar í raforkuframleiðslu er um 70% á móti um 30% sem kemur frá jarðvarmavirkjunum
24
FÍB-blaðið
Komast má til Búrfellsvirkjunar með því að aka upp Skeiðin, eftir heimsókn að Urriðafossi, beygja síðan inn í það landsvæði sem í daglegu tali er nefnt Þjórsárdalur (vegur 32) og áfram upp með Þjórsá að vestanverðu. Á leið þangað blasa við blómlegar sveitir og búsældarleg tún. Þegar ekið er meðfram Þjórsá má velta fyrir sér hvílíkur orkugjafi áin er. Áður en hún kemur niður á láglendið hefur hún og þverár hennar knúið hverfla í sjö vatnsorkuverum. Hver og ein þeirra fer langt með að duga til raforkuframleiðslu fyrir stóran hluta landsins. Búrfellsstöð I og II eru þeirra neðstar, enn sem komið er, því að í áðurnefndri rammaáætlun er gert ráð fyrir virkjun, Holtavirkjun. Virkjunin er ekki alveg óumdeild og má m.a. sjá að sett hefur verið upp skilti upp í miðjum hlíðum á einum stað ofan hinnar fyrirhuguðu virkjunar þar sem segir: Áætluð lónshæð! Á leiðinni að Búrfellsstöð má heimsækja marga áhugaverða staði. Skógrækt ríkisins er með gríðarmikla starfsemi í Þjórsárdal. Mikið ævintýraland er í skóglendinu sem þarna hefur verið byggt upp í kjölfar friðunar snemma á síðustu öld. Hægt er að beygja út af veginum um Þjórsárdal skömmu fyrir ofan Ásólfsstaði (merkt með skilti „Gönguleiðir“) og þar tekur skógurinn á móti gestum með góðum göngustígum og fræðsluskiltum. Hægt er að fara þar langa og stutta hringi og fylgja vel merktum göngustígum. Eftir heimsókn í skóginn er skylduheimsókn að Hjálparfossi. Það tekur fáeinar mínútur að aka niður að fossinum og vegurinn er nýlega endurnýjaður og góður. Fleiri skylduheimsóknir eru auðvitað á þessum slóðum. Það er tiltölulega stuttur akstur inn að Stöng þar sem fræðast má um stórbýlið sem þar var og talið er að hafi farið eyði í stórbrotnu gosi í Heklu árið 1104. Aksturinn heim að Búrfellsvirkjun er örstuttur, þar er hægt að leggja lykkju á leið sína og skoða Þjóðveldisbæinn undir Sámsstaðamúla en heimsókn að virkjuninni gefur mjög góða innsýn í það ógnarafl sem virkjanir í Þjórsá og á vatnasvæði hennar framleiða. Margar virkjanir Landsvirkjunar eru skreyttar með lágmyndum eða öðrum listaverkum og á Búrfellsstöð 1 gleður augað lágmynd eftir Sigurjón Ólafsson. Aðeins innar, þegar ekið er eða gengið hjá virkjunarmannvirkinu, gefur að líta hvar Búrfellsstöð 2 er en hún er niðurgrafin og sést ekki fyrr en að henni kemur og þá aðeins hellismunninn.
Búrfellsvirkjun
Eftir heimsókn að Búrfellsstöð er hægt að aka upp Sámsstaðamúla og inn á hálendið og skoða vindmyllurnar tvær sem staðið hafa á Hafinu um árabil sem tilraunaverkefni til að meta hvort ráðast ætti í uppbyggingu vindmyllugarða á þessum slóðum. Vindmyllurnar eru þær langstærstu hér á landi, ná 77 metra upp í loft og framleiða nægilegt rafmagn til að sjá um 1200 heimilum fyrir rafmagni. Hér hefur fátt eitt verið talið af því sem hægt er að skoða á því sem kallað hefur verið Þjórsárdalshringurinn. Hringnum lýkur með því að ekið er yfir Þjórsá á brú rétt neðan við Sultartangavirkjun og þaðan er leiðin greið niður á Landveg (26) sem leiðir ferðalanga niður á Hringveginn.
Urriðafoss
Hjálparfoss
FÍB-blaðið
25
Reykjanes — áfangastaður Reykjanesið hefur sannarlega fengið verðskuldaða athygli frá því að eldgos hófst við Fagradalsfjall þann 19. mars og mjög margir hafa gert sér ferð til að sjá eldstöðina og ummerki eftir hana. Full ástæða er til að gera það og helst að fara sem oftast en ekki síður að nýta ferðina og skoða fleira því að Reykjanesið hefur upp á margt að bjóða. Þar má m.a. rifja upp sögufræga atburði Íslandssögunnar, fræðast um dýralíf, skoða einstakt fuglabjarg, líta sögufrægt stöðuvatn augum að ógleymdum fleiri náttúrugersemum og vinsælasta ferðamannastað á Íslandi. Allt er þetta svo að segja innan seilingar þegar skotist er að skoða eldstöðina eða afleiðingar af eldgosinu þar. Sé ekið áleiðis á Reykjanes frá höfuðborgarsvæðinu er alveg kjörið að líta við á Álftanesi og stoppa við Bessastaði, heimili og embættisbústað forseta lýðveldisins. Bessastaðir eru samgrónir Íslandssögunni. Rifja má upp að þeir komust í eigu Noregskonungs við dráp Snorra Sturlusonar árið 1241 en urðu síðan bústaður fulltrúa erlenda konungsvaldsins hér. Stórskáldið og þingmaðurinn Grímur Thomsen eignaðist Bessastaði um miðja þarsíðustu öld og eftir lát hans var þetta höfuðból í eigu ýmissa merkismanna, karla og kvenna, þeirra á meðal Skúla Thoroddsens þingmanns og sýslumanns, og síðar Sigurðar Jónassonar, forstjóra Tóbakseinkasölu ríkisins, sem átti Bessastaði síðastur einstaklinga og gaf þá íslenska ríkinu Bessastaði árið 1941 til að þar gæti ríkisstjóri setið. Bessastaðakirkja er næst bílastæðinu, tígulleg bygging sem hlaðin er úr tilhöggnu grágrýti úr hinu nafntogaða Gálgahrauni. Smíði hennar hófst árið 1773 og telst hún því með elstu steinhúsum á landinu.
Kleifarvatn er vinsæll áfangastaður þeirra sem ferðast um Reykjanes Vatnið er furðu víðáttumikið, tæpir 10 ferkílómetrar og djúpt eftir því, meira en 100 metrar þar sem þar er dýpst. Auðvitað er í því tígullegt vatnaskrímsli sem margar sögur fara af í þjóðsögum okkar. Það hefur einkennt vatnið hversu vatnsborðið færist til og stafar það að mati vísindamanna af breytingum á úrkomu en ekki síður vegna jarðskjálfta. Í kjölfar stóru jarðskjálftanna árið 2000 lækkaði yfirborð vatnsins um fjóra metra. Þeir sem muna lengra aftur geta rifjað upp árið 1973. Þá fannst, að því að talið var, sovéskur fjarskiptabúnaður þegar sportkafarar köfuðu í vatninu. Þá stóð kalda stríðið sem hæst og mikil spenna ríkti. Um sumarið hafði verið efnt til leiðtogafundar Richards Nixons, forseta Bandaríkjanna, og Georges Pompidous Frakklandsforseta í Reykjavík og töldu margir að tækin hefðu tengst honum eða öllu heldur njósnum Sovétmanna vegna hans. Að sjálfsögðu upplýstist ekkert í þeim efnum. Þessar sögur virðast síðan hafa orðið Arnaldi Indriðasyni, skáldinu góðkunna, að innblæstri því að hann sendi frá sér bókina Kleifarvatn árið 2004 þar sem vatnið, töfrar þess og leyndarmál koma mikið við sögu. Ágætis útsýnisstaðir eru við Kleifarvatn þar sem m.a. er hægt að virða fyrir sér jarðlögin sem mótast hafa af náttúruöflunum og gefa staðnum einstakt yfirbragð.
Kleifarvatn
Á hverasvæðinu Seltúni (sem oft er kallað Krýsuvík) eru stórgóðar og haganlega gerðar gönguleiðir sem gefa færi á að standa í miðjum hverailminum og njóta eða ganga upp fyrir svæðið og horfa yfir það. Það hefði þó ekki verið ákjósanlegt að standa í þeim sporum aðfaranótt 25. október 1999 en þá varð mikil gufusprenging í borholu frá miðri síðustu öld. Fyrr í mánuðinum hafði holan hætt að blása og virtist hún hafa stíflast. Við atganginn myndaðist mikill sprengigígur sem talinn er hafa verið hátt í 50 metrar í þvermál. Heilmikið rask varð af og grjót og leir flaug langar leiðir og eyðilagði m.a. skúrgarm sem stóð þar nærri.
Brimketill Á sunnanverðu Reykjanesi, ekki langt vestan Grindavíkur, er náttúrufyrirbrigði sem lætur ekki mikið yfir sér frá veginum séð. Þar hefur sjórinn sorfið til hraunið og afraksturinn er ketill þar sem sjór flæðir inn í og oft gengur æði mikið á í briminu þar. Sagan hermir að tröllskessa nokkur, Oddný sem bjó þar ekki langt frá, hefði notað ketilinn til baða eftir erfitt ferðalag. Henni dvaldist nokkuð í lauginni enda þurfti hún að hvílast og vistin var notaleg í hressandi sjóbaðinu. Það endaði hins vegar ekki vel því að þegar hún lagði af stað upp úr lauginni var sólin að skríða yfir fjallstoppana og steingerði hana þarna á staðnum. Lögin nefndist Oddnýjarlaug í þjóðsögunni en nefnist nú Brimketill. Ágætis göngustígur er að útsýnispalli en rétt að vara við því að oft gengur talsvert á í brimrótinu og alls ekki er óalgengt að fólk fái yfir sig gusur ef það gáir ekki af sér. Nokkur ásókn hefur verið að baða sig í Brimkatli en rétt er að vara við því sbr. það sem sagt var um brimrótið hér að framan. Reykjanesviti – Reykjanes – Eldey – Geirfuglinn Þegar ekið er um hlaðið hjá Reykjanesvita og áleiðis niður að sjó er gaman að velta því fyrir sér að þetta fallega mannvirki, sem stendur teinréttur og hár uppá Bæjarfelli, er elsti viti Landsins, reistur 1907. Áður hafði forveri hans verið reistur á Valahnúki skammt þar frá árið 1878 en hann laskaðist í jarðskjálfta sem reið yfir átta árum síðar. Sá sem nú stendur hefur reyndar fengið að kenna á jarðskjálftum, m.a. skemmdist hann nokkuð í einum slíkum árið 1926. Aðeins steinsnar er frá vitanum og niður á Reykjanestána, hið eiginlega Reykjanes. Á góðum sumardegi er hægt að
gleyma sér við að horfa á fuglana dansa yfir öldunum og dást að búsetu þeirra í bergstálinu. Stutt er út til Eldeyjar sem gaman er að virða fyrir sér. Eldey er um 45 metra yfir sjávarmál og hýsir eina stærstu súlubyggð í heiminum. Þar hafast tugþúsundir af þessum tígullega fugli við og treysta á gjöfult hafið út af Reykjanesinu til fæðuöflunar. Eldey varð til í neðansjávargosi á sögulegum tíma. Hún er í raun innsta skerið af allmörgum sem skreyta Norður– Atlantshafshrygginn út af landinu okkar bláa og bera þess glöggt vitni að eldgos eru fremur regla en undantekning hér um slóðir. Í Eldey var árið 1844 framinn sá verknaður að síðustu tveir geirfuglarnir, sem vitað er um á Íslandi, voru drepnir og varð tegundin þar með að líkindum aldauða. Við Valahnúk er tígulegur mannhæðarhár bronsskúlptúr af geirfugli eftir bandarískan listamann. Sá hefur gert slíka af útdauðum fuglategundum og reist víða um álfur. Styttan er okkur þörf áminning. Gunnuhver Gunnuhver fer ekki framhjá ferðalangi á Reykjanesi. Hann gerir svo rækilega vart við sig með kraftmiklum gufumekki og sést langt að. Hverinn er í fáeinna mínútu akstursfjarlægð frá Reykjanesvita. Gunnuhver er talsvert umfangsmikill. Reyndar stækkaði hverasvæðið sem hann tilheyrir árið 2006 og voru þau umbrot jafnvel talin tengjast breytingum á jarðvatnsstöðunni á svæðinu. Þegar þær breytingar gengu yfir fóru göngupallar og akvegur á kaf. Búið er að byggja nýja slíka sem gefa einstakt tækifæri til að standa nálægt en þó í öruggri fjarlægð. Heiti hversins er skýrt á þann veg að kona nokkur sem Guðrún hét og var Önundardóttir hafði haft í heitingum við yfirvaldið vegna potts sem tekinn hafið verið af henni, væntanlega upp í skuld. Guðrún, eða Gunna eins og hún er nefnd í sögunni, hét því að hefna sín á viðkomandi embættismanni og eftir andlátið segir sagan að hún hafi gengið aftur og murkað líftóruna úr meintum meingerðarmanni hennar. Ekki lét draugurinn þar við sitja og vann mikil og mörg spellvirki á fólki og fénaði á svæðinu. Séra. Eiríkur í Vogsósum féllst með semingi á að aðstoða við að koma draugi kellingarinnar fyrir kattarnef og lagði á ráðin sem voru þau að láta hann hafa hnoðra af garni og láta hann halda í lausa endann. Hnoðrinn myndi síðan velta og draugurinn enda þar sem hann væri best geymdur. Menn fóru að ráðum séra Eiríks og hélt kerlingardraugurinn í endann, hnoðrinn valt að hvernum og ofan í hann og draugsi á eftir. Hefur ekkert til draugsins spurst síðan en hverinn fékk nafn kerlingarinnar. EHH
Hafmeyjan í Brimkatli
Bíll ársins á Íslandi 2021
Volkswagen ID-4
Volkswagen ID-4 hlaut Stálstýrið um val á bíl ársins 2021 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands. Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) stendur að þessu kjöri. Bílablaðamenn frá bilablogg.is, Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, FÍB–blaðinu, Viðskiptablaðinu og visir.is tóku þátt í lokaprófinu. Ekki fór fram val á bíl ársins í fyrra sökum kórónaveirufaraldursins. Í kjölfarið var tekin ákvörðun um að færa valið aftur til vormánaða. Verðlaunaðir voru 12 bílar sem komust í úrslit og sá sem flest stig hlaut Stálstýrið eftirsótta. BÍBB hefur staðið fyrir valinu á Bíl ársins frá árinu 2001 og notast við stigakerfi í tólf flokkum líkt og hjá öðrum þjóðum. Gefin eru stig frá 0 og upp í 10 og er því hámarks stigafjöldi hvers bíls 120 frá hverjum dómara. Lokaprófanir fóru fram 26. maí og eftir hana var ljóst hvaða bíll hlyti nafnbótina bíll ársins og um leið Stálstýrið eftirsótta. Þess má geta að Volkswagen ID-4 hefur vakið verðskulduga athygli en bílinn var útnefndur „heimsbíll ársins“ (WCOTY) fyrir árið 2021. Bíllinn varð hlutskarpastur í vali rúmlega 90 blaðamanna frá 24 löndum.
Jóhann Ingi Magnússon frá bílaumboðinu Heklu tekur hér við Stálstýrinu úr hendi Finns Thorlacius.
Í flokki minni jepplinga/jeppa komust tveir rafbílar í úrslit og einn tengiltvinnbíll. Bílarnir í úrslitum í flokknum voru: MG EHS PHEV, Skota Enyaq EV og Volkswagen ID-4. Í þessum flokki fékk Volkswagen ID-4 flest stig, alls 838.
Í flokki minni fólksbíla komust tveir rafbílar í úrslit ásamt einum sem knúinn er af jarðefnaeldsneyti. Bílarnir voru: Opel Corsa E, Toyota Yaris, Honda ES. Opel Corsa fékk flest stigin í þessum flokki, alls 768.
Í flokki stærri fólksbíla komust Volkswagen ID-3, Peugeot e-2008 og Opel Mokka í úrslit. Þar af voru tveir rafbílar og einn sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Volkswagen ID-3 fékk flest stig í þessum flokki, alls 780.
Í flokki stærri jepplinga/jeppa voru engir rafbílar. Þar komust í úrslit Ford Explorer, Kia Sorento og Land Rover Defender. Í þessum flokki fékk LR Defender flest stig, alls 776.
Rafskútur og umferðaröryggi Rafskútur (e. e-scooter) eru rafknúin hlaupahjól, oft einnig kölluð rafhlaupahjól eða rafskottur. Þær eru skv. umferðarlögum reiðhjól í flokki C (sem eru ökutæki) og eingöngu til nota á göngu- og hjólastígum en ekki akbrautum enda ekki ætluð til hraðari aksturs en 25 km/klst. Þessi ferðamáti er kominn til að vera með tilheyrandi áhrifum á ferðavenjur. Vinsældir rafskúta sýna að vegfarendur eru opnir fyrir nýjungum í samgöngum. Segja má að rafskútur hafi hafið innreið sína á Íslandi haustið 2019 og á ekki lengri tíma hefur þeim fjölgað verulega og magn leiguskúta á höfuðborgarsvæðinu margfaldast. Nýjum farartækjum fylgja bæði kostir og gallar. Kostirnir felast m.a. í því að þetta eru létt og umhverfismild tæki sem bæta samgönguvalkosti almennings. Neikvæðasti þátturinn er slysatíðnin sem hefur aukist mikið þrátt fyrir covid-19 og hrun í ferðaþjónustu. Mikilvægt er að ná utan um slysin og efla umferðaröryggi og forvarnir til þessa að stemma stigu við þeirri vá. Rannsókn VSÓ VSÓ ráðgjöf skilaði af sér rannsóknarverkefni með skýrslu í lok maí, Rafskútur og umferðaröryggi. Rannsóknin var unnin með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborg. Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvaða áhrif rafskútur hafi á umferðaröryggi og hvaða þættir ógni helst öryggi rafskútunotenda og annarra vegfarenda í umferðinni. Farið var yfir íslensk og erlend gögn og rannsóknir varðandi rafskútnotkun og slys. Skýrsluhöfundar benda m.a. á að aukin þjálfun og kennsla í notkun rafskúta minnki líkur á slysum. Ljósanotkun og hraðatakmarkanir séu mikilvægar. Einnig komu fram ábendingar um mögulegar laga- og reglubreytingar, s.s. lágmarksaldur, lækkun hámarkshraða, og kröfur um hvar megi aka rafskútum og hlífðarbúnað. Einnig er reifað að setja frekari reglur og takmarkanir varðandi rafskútuleigur og að tekin sé afstaða til þess hvort æskilegt sé að setja hömlur á útleigu um helgar. Sprenging Fram kemur í skýrslunni að margt verði að hafa í huga í tengslum við innkomu nýrra ferðamáta sem á skömmum tíma geta náð mikilli útbreiðslu og vinsældum, líkt og rafskúturnar. Tæplega tvö þúsund rafskútur voru til útleigu á höfuðborgarsvæðinu í maí og hafa þær einnig dreift sér til bæja á landsbyggðinni. Rafskútum í einkaeigu hefur fjölgað mikið og eru nú á um 12% reykvískra heimila. Kannanir erlendis hafa sýnt að 93% notenda rafskúta leigja þær af rafskútuleigum, og að rafskútur hafi áhrif á ferðamáta fólks. Mörg slys á rafskútum sem tengjast yfirborði slitlaga á stígum auka á mikilvægi þess að bæta uppbyggingu innviða fyrir rafskútur. Kannanir sýna að um 44% landsmanna hefur prófað rafskútu og af þeim sem nota þær reglulega segjast 12% vilja nota þær á götum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst eða lægri, sem er ólöglegt í dag. Slys Í skýrslu VSÓ segir að af þeim 149 einstaklingum á aldursbilinu frá 8 ára upp í 77 ára sem heimsóttu bráðamóttöku Landsspítalans vegna rafskútuslysa sumarið 2020, 1. júní til 31. ágúst, var 45% undir 18 ára aldri. Í 60% tilvika var of mikil hraði fyrir hendi, viðkomandi misst jafnvægið eða ójafna í götu var talin orsök slyss. Áfengi eða önnur vímuefni voru í blóði 27 einstaklinga 18 ára og eldri við notkun rafskúta. Hjálmanotkun ungmenna reyndist vera 79% en aðeins 18% hjá fullorðnum. Þá reyndust 38% einstaklinga með beinbrot og 6% notenda þurftu innlögn á sjúkrahús. Rafskútur í Osló Nýverið samþykkti borgarráð Oslóar að takmarka magn rafskúta sem boðnar eru til leigu í borginni. Frá og með 1. september n.k. verður rafskútum til útleigu fækkað úr tuttugu þúsund niður í átta þúsund. Norskir læknar greindu í sumar frá fjölgun slysa vegna rafskúta. Fram kom að 856 hafi slasast í Osló í tengslum við rafskútunotkun það sem af er ári. Flest slysin eða 57% verða á milli ellefu að kvöldi og fimm að morgni.
Skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa á tveimur umferðarslysum Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa kemur fram að gámalásar tengivagns hafi átt þátt í alvarlegu slysi á Vesturlandsvegi í byrjun síðasta árs. Lásar tengivagnsins voru í bágbornu ástandi og er talið að það hafi, ásamt öðru, valdið slysinu. Tveir slösuðust þar alvarlega og kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa að hvorugur þeirra muni eftir aðdraganda slyssins. Fram kemur í skýrslunni og orsakagreiningu slyssins að gámalásar tengivagnsins hafi verið of veikir til að halda gámi föstum undir væntu hliðarálagi og án hliðarstýringa sem höfðu verið fjarlægðar. Þá segir enn fremur að ökumaður gámabifreiðarinnar hafi ekki gætt að því að læsa loki gámsins. Slysið varð þegar vörubifreið var ekið suður Vesturlandsveg í Kollafirði á sama tíma og gámaflutningabifreið með tengivagni var ekið á móti.
Í skýrslunni segir að rétt áður en bifreiðarnar mættust féll gámur af tengivagninum í veg fyrir vörubifreiðina. Ökumaður vörubifreiðarinnar hlaut alvarlega áverka við áreksturinn. Tengivagninn sveiflaðist til aftan í gámabifreiðinni og rakst á fólksbifreið sem ekið var á eftir vörubifreiðinni. Ökumaður hennar hlaut einnig alvarlega áverka Rannsóknarnefndin leggur m.a. til bindandi öryggisreglur um úttektir á gámalásum og krókheysisbúnaði.
Þá hefur Rannsóknarnefndar samgönguslysa enn fremur lokið rannsókn á banaslysi sem var á Suðurlandsvegi við Stigá: „Ökumaður á bifhjóli var á austurleið rétt vestan við Stigá. Stuttu áður en hann kom að brúnni byrjaði hjólið að skjálfa eða skakast til með þeim afleiðingum að ökumaðurinn missti stjórn á því, féll og rann eftir veginum. Hann rakst utan í bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt og kastaðist út fyrir veg. Ökumaðurinn lést af völdum áverka sem hann hlaut í slysinu.“ Fram kemur í skýrslunni að veður var gott, suðvestan 10 m/s og léttskýjað. Stuttu fyrir slysið hafði ökumaður á vesturleið mætt bifhjólinu vestan við brúna yfir Stigá. Vitnið sá að hjólið tók að rása, fyrst framhjólið og stýrið, þar til allt hjólið fór að sveiflast til. Hjólið stefndi þá yfir á rangan vegarhelming og þurfti vitnið að aka eins og hægt var út í vegkant til að koma í veg fyrir að hjólið lenti á bifreiðinni. Vitnið sá síðan ryk og/eða reyk í baksýnisspeglinum eftir að hjólið féll á hliðina. Í skýrslunni kemur fram að ökumaður bifhjólsins hafi verið með opinn hjálm sem ekki er ætlaður til notkunar við akstur bifhjóls og veitti ekki þá vörn sem viðurkenndir bifhjólahjálmar gera. Hökuólin slitnaði af í slysinu og hjálmurinn losnaði. Ökumaðurinn var í strigaskóm, leðurbuxum og hlífðarskyrtu með ísaumaðri bakbrynju og olnbogahlífum. Skyrtan dróst upp og veitti minni vernd en mögulegt hefði verið. Leyfður hámarkshraði er 90 km/klst við bestu aðstæður.
Greinanleg ummerki eftir bifhjólið, þar sem það sveiflaðist til á veginum, voru um 40 metrar og ummerki sem bentu til þess að hjólið hafi fallið á hliðina og runnið eftir veginum voru um 85 metrar. Hjólið rann og valt svo rúma 50 metra utan vegar. Útreikningar sérfræðings benda til þess að bifhjólið hafið verið á 122 km/klst (öryggisbil 112–130 km/klst) hraða fyrir slysið. Bifhjólið var tekið til tækniskoðunar eftir slysið. Framhjólbarði var í lagi, með 39 psi þrýsting sem er nokkuð yfir ráðlögðum loftþrýstingi frá framleiðanda. Framhjólbarðinn var eldri en sá aftari. Afturhjólbarðinn var loftlaus eftir slysið en sennilegt er að hann hafi skemmst í slysinu frekar en fyrir það. Ein festing farangursboxins var laus. Hugsanlegt er að það hafi haft áhrif eftir að hjólið tók að rása en ólíklegt að það hafi valdið því að hjólið fór að rása. Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir þeirri tillögu til Samgöngustofu að auka fræðslu um hlífðarbúnað bifhjólamanna. Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til ökumanna bifhjóla að huga vel að hlífðarbúnaði sínum og yfirfara hann reglulega. Í 1. mgr. 78. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, er öllum sem eru á bifhjóli eða torfærutæki skylt að nota viðurkenndan hlífðarhjálm. Hjálmar gegna miklu hlutverki í slysavörnum. Ýmis annar hlífðarbúnaður, sem mikilvægt er að kynna sér vel, er framleiddur fyrir bifhjólaakstur, svo sem slitsterkur hlífðarfatnaður með brynjum, hanskar og skór.
Ísland í öðru sæti í rafbílavæðingunni – Norðmenn öflugastir
Tæplega þrír af hverjum fjórum Norðmönnum, sem keyptu sér nýjan bíl á síðasta ári, völdu nýorkubíl. Þetta kemur fram í könnun sem Trading Platforms vann þar sem fram kemur sala á endurhlaðanlegum bílum um heim allan. Norðmenn hafa lengi verið leiðandi á þessum markaði en í mörgum löndum fjölgar rafbílum verulega. Hlutdeild nýorkubíla í Noregi á árinu 2020 var 74,8%, Ísland kom í öðru sæti með 45% og Svíar voru í þriðja sæti með 42,2%. Þess má geta að markaðshlutdeild rafbíla í Noregi var aðeins 1% fyrir rétt rúmum áratug. Í Evrópu tvöfaldaðist sala á rafbílum annað árið í röð 2020. Rafbílar voru 20% bíla sem voru seldir í fyrra í Þýskalandi og um 15% í Bretlandi og Frakklandi. Heildarsala nýorkubíla um heim allan var 2,5% árið 2019 af allri bílasölu en var komin upp í 4,2% árið 2020. Þær 15 þjóðir, sem eru með stærsta hlutann af endurhlaðanlegum bílum, eru í Evrópu en Kína kemur í 16. sæti. Í heimalandi Tesla, Bandaríkjunum, eru rafbílar og tengibílar aðeins 2,3% af heildarsölunni. Nýleg norsk könnun leiðir í ljós að áhugi fyrir rafbílum er mestur hjá yngra fólki og hjá þeim sem hafa meiri menntun og hærri tekjur. Í aldurshópnum 34–49 ára svara allt að 76% því til að rafbíll verði fyrir valinu sem næstu kaup. Í könnuninni kemur þó fram að dísil- og bensíneigendur sveiflist fram og til baka í ákvörðunartöku sinni en íhugi á sama tíma að kaup á rafbíl væri skynsamur kostur sem vert er að skoða frekar. Landsbyggðarfólk í Noregi er hlynntara rafbílum en þeir sem búa í borgum. Flestir á landsbyggðinni aka um á dísilbíl en nú hefur áhuginn á rafbílum aukist til muna. Í könnuninni kemur fram að eftir sem tekjurnar eru hærri þeim mun meiri áhugi er fyrir kaupum á rafbíl en jarðefnaeldsneytisbílum. Alls seldust 1,4 milljónir rafbíla í Evrópu 2020 eða sem samsvarar 8% allra seldra bifreiða. Búist er við að markaðshlutdeildin í Evrópu tvöfaldist á þessu ári og verði um 15%.
Eyjafjörður
Víkurskarð
Akureyri Seyðisfjörður
Vaðlaheiðargöng
Akureyri Reykjavík
Frítt fyrir aftanívagna í Vaðlaheiðargöng
Þjónustuver Vaðlaheiðarganga er opið 10 til 12 og 13 til 15 virka daga 464 1790
veggjald@veggjald.is
Toyota Mirai ók yfir þúsund km á einum vetnisgeymi Franskt fjögurra manna teymi setti nýtt met þegar það ók Toyota Mirai yfir þúsund kílómetra á einum vetnisgeymi. Ferðin hófst snemma að morgni dags í maí 2021 frá vetnisstöð Hysetco í Orly skammt frá París og lauk eftir 1003 kílómetra. Þá var vetnisgeymirinn næstum tómur. 1003 kílómetrunum var ekið á þjóðvegum suður af París og staðfesti óháður þriðji aðili kílómetrafjölda og vetnisnotkun. Samkvæmt Toyota er um nýtt heimsmet að ræða. Grænt vetni var notað við mettilraunina og var meðalneyslan 0,55 kg / 100 km. Nýr Mirai tilheyrir annarri kynslóð vetnisrafbíla frá Toyota. Skilvirkara eldsneytiskerfi, ásamt betri lofthreyfingu og meiri vetnisgeymslu, stuðlar að áætluðu drægi um 650 km við venjulegar akstursaðstæður. Ökumenn notuðu vísvitandi mjög hagkvæmt aksturslag til að ná metinu 1003 km en umfram það var engin sérstök aksturstækni notuð. Meðal fjögurra ökumanna sem settu metið var Victorien Errusard, einn af stofnendum Energy Observer. Aðrir ökumenn voru James Olden, verkfræðingur hjá Toyota Motor Europe, Maxime Le Hir, vörustjóri hjá Mirai og Marie Gadd framkvæmdastjóri hjá Toyota Frakklandi.
5,6 kg H
2
= 1003
í
Vefverslun FÍB, öryggi og þægindi fyrir ferðalagið Nánar á FIB.is
34
FÍB-blaðið
km
Kafli milli Hveragerðis og Selfoss tekinn í notkun í haust Framkvæmdir við 2. áfanga breikkunar Hringvegar (1) milli Hveragerðis og Selfoss ganga vel og eru á áætlun. Brúarsmíði er í fullum gangi en fimm steyptar brýr og undirgöng ásamt tveimur reiðgöngum úr stáli eru hluti verksins. Vinnu við lagnir veitufyrirtækja er að ljúka og er næsta skref að byggja upp Ölfusveg svo beina megi umferð um hann á meðan Hringvegur er byggður upp og breikkaður. Gert er ráð fyrir að austasti hluti hans ásamt hringtorgi við Biskupstungnabraut verði tekinn í notkun haustið 2021 en endanleg verklok samkvæmt útboði eru í september 2023. Verkið heitir Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Gljúfurholtsá. Útboðskaflinn liggur um land sveitarfélaganna Árborgar og Ölfuss og skiptist í Hringveg (um 7,2 km), Ölfusveg (um 6,6 km), Þórustaðaveg (um 0,4 km) og Biskupstungnabraut (um 0,7 km). Tvö stærri vegamót eru í framkvæmdinni, hringtorg við Biskupstungnabraut og nýjan Hringveg og svo hliðfærð T-vegamót á Hringvegi við Hvammsveg eystri og Kirkjuferjuveg. Til framkvæmdanna teljast einnig smíði þriggja brúarmannvirkja, tveggja undirganga og tveggja reiðganga auk breytinga á lagnakerfum veitufyrirtækja. Hringvegur verður byggður upp sem 2+2 vegur en gengið verður frá yfirborði hans sem 2+1 vegar. ÍAV – Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta tilboð í verkið, 5.069 m.kr. og var skrifað undir samning í apríl 2020 en framkvæmdir hófust strax að því loknu. Ágúst Jakob
Mynd IAV Ólafsson verkstjóri ÍAV segir verkið ganga mjög vel: „Fyrsti fasi verkefnisins fór í að setja farg á austasta hluta af Hringveginum sjálfum frá Ingólfsfjalli austur að Selfossi og hliðarveg, svokallaðan Ölfusveg, á sama svæði, framhjá Kögunarhóli og austur með Ingólfsfjalli,“ lýsir Ágúst en laus jarðlög eru á svæðinu, sérstaklega mýrarjarðvegur sem er allt að 8 m þykkur. Fergja þarf slík svæði í ákveðinn tíma áður en hægt er að hefja eiginlega vegagerð. „Við settum um 440 þúsund rúmmetra farg á þessi tvö svæði í fyrrasumar og erum byrjaðir að leggja vegina í endanlegri mynd þeirra.“ Af þremur brúm er búið að steypa upp brú á Gljúfurholtsá um Ölfusveg og verið að byggja aðra á Gljúfurholtsá á Hringvegi. „Við erum einnig að byggja undirgöng um Kotströnd þar sem Ölfusvegur fer undir Hringveginn og búið er að gera ein reiðgöng undir Hringveginn nær Selfossi.“ Verkið er afar viðamikið enda með stærri verkefnum sem Vegagerðin hefur boðið út. Eitt af flækjustigunum er að samþætta breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja en ÍAV sér um jarðvinnu og nýlagnir fyrir Veitur, Mílu, Gagnaveitu Reykjavíkur, Ölfus, Árborg, Árbæjarhverfi og Rarik. Ágúst segir þessa vinnu hafa gengið vel og henni sé nánast lokið.
Mynd Vegagerðin
„Næstu verkefni er að byggja upp Ölfusveg til að færa umferð á hann af Hringvegi svo að hægt sé að byggja upp Hringveginn. Síðan á að byggja upp austasta hluta Hringvegarins, næst Selfossi. Það eru hringtorg við Biskupstungnabraut og austasta hluta af Hringvegi,“ lýsir Ágúst en þennan hluta af Hringvegi á að taka í notkun í haust. FÍB-blaðið
35
Reynsluakstur
Renault Captur PHEV Fyrstu viðbrögðin við akstur á Renault Captur PHEV er hversu snöggur hann er og þægilegur í akstri. Eins og með marga aðra bíla var dráttur á því að þessi bíll kæmi á markað. Hann var biðarinnar virði og hefur vakið hvarvetna athygli og selst ágætlega í Evrópu. Margir biðu spenntir eftir því að berja hann augum og keyra en heimsfaraldurinn setti strik í reikninginn. Bíllinn býr yfir mörgum kostum sem prýðir jeppling og framleiðandanum hefur tekist að gera útlínur hans mun skarpari en áður. Fyrir vikið lítur hann betur út
36
FÍB-blaðið
en fyrri kynslóðir, rýmið betra fyrir ökumann og farþega. Mikil vinna hefur verið lögð við hönnun bílsins á allan hátt og markmiðið mæta kröfum neytandans hvað varðar alla tækni varðar og öryggi. Enn fremur vekur eftirtekt C-laga LED ljósabúnaður sem setur sterkan svip á bílinn. Bíll¬inn hefur hlotið full hús öryggisstiga hjá Euro NCAP. Renault Captur tengitvinnbíllinn er með tækni sem kemur beint úr Formúlu 1. Hún kallast E–Tech og
byggir á tveimur rafmótorum sem hjálpa 1,6 lítra bensínvél yfir sex gíra sjálfskiptingu. Bíllinn fer alltaf af stað á raforkunni einni saman og nær nægum hraða til að fá bensínvélina inn. Fjórar aksturstillingar eru í boði og er MySense einna athyglisverðust og krefst minnst af ökumanni. Þá er E–Save stillingin mestmegnis notuð til að spara rafmagn. Bíllinn er 160 hestöfl, búinn 1,6 lítra fjögurra strokka bensínvél og tveimur rafmóturum. Drægi bílsins er um 65 km við bestu akstursskilyrði á langkeyrslu. Rafhlaðan er 9,8 kWh.
Rými ökumanns er vel útfært, notendavænt og þægilegt Rými ökumanns er vel útfært, notendavænt og þægilegt á allan hátt með 9,3" margmiðlunar- og snertiskjá og 10,2" stafrænt mælaborð, miðstokkurinn er með nýstárlegri „E-shift“ gírstöng. Rými fyrir ökumann og farþega er nokkuð gott en það getur stundum verið fulllítið í bílum en í Renault Captur fer ágætlega vel um fullorðna. Þetta er mikill kostur, sérstaklega í langkeyrslu. Aftursætin er hægt að leggja niður og renna til um allt að 16 cm, farangursrýmið er sérlega rúmgott (allt að 536 l) og fjöldi geymsluhólfa er til staðar (allt að 27 l geymslurými). Einn ókosturinn er að útsýni úr aftursætum mætti vera betra. Álitlegur kostur í bifreiðakaupum Heilt yfir má segja að Renault Captur sé vel hannaður bíll og mjög álitlegur kostur í bifreiðakaupum. Kaupandinn er að fá góðan bíl á ágætu verði, samanborið við margt annað sem markaðurinn býður upp á. Renault Captur hefur vakið athygli og selst víða vel. Þessi fyrsti tengitvinnbíll framleiðandans og eitt af flaggskipum síðustu ára hefur nú þegar vakið töluverða athygli og lyft bílnum á enn hærra plan. Fjárfesting í nýjum bíl er stór ákvörðun hjá mörgum eftir mikla yfirvegun. Nýorkubílar njóta vaxandi vinsælda og þar kemur Renault Captur sterkur inn. Fyllilega samkeppnishæfur við aðra jepplinga á markaðnum Renault Captur er fyllilega samkeppnishæfur við aðra jepplinga á markaðnum. Verðið er tiltölulega gott, frá 4.490.000 upp í 5.100.000. Intens+ bíllinn er vel útbúinn og býður upp á 360° myndavél, blindhornaviðvörun, leiðsögukerfi með Íslandskorti, Bose hljómkerfi, upplýsingaskjá í mæliborði og þráðlausa farsímahleðslu.
Renault Captur PHEV Grunnverð: 4.690.000 kr. Afl: 160 hestöfl Rúmtak: 1.598 cc Upptak 0-100 km: 10,1 sek Tog: 348 Newton–metrar Drægi rafhlöðu: 65 km Hámarkshraði: 172 km/klst. Eyðsla bl. ak: 1,5 l/100 km CO2: 34 g/km Rafhlaða: 10 kWst Farangursrými: 265 lítrar L/B/H: 4.227/1.797/1.576 mm Hjólhaf: 2.639 mm Eigin þyngd: 1.564 kg
Drægi Útsýni úr aftursætum FÍB-blaðið
37
Reynsluakstur
Jeep Wrangler
Rubicon 4xe PHEV Varla fara fram hjá mörgum hinar stóru breytingar sem nú eiga sér stað á samgöngum og má þar sérstaklega nefna rafbílavæðinguna. Stóru breytingarnar eru augljóslega þær að framleiðendur eru að skipta út sprengihreyfli fyrir rafmagn en stundum gleymist að horfa til hversu ört aðrir þættir bílsins breytast hvað varðar efnisval og hönnun á burðarvirki. Framleiðendur eru þannig sífellt í leit að umhverfisvænni leiða og er þar einn af mikilvægustu þáttunum að draga úr þyngd og loftmótstöðu án þess þó slakað
sé á öryggiskröfum. Þannig hefur plast, koltrefjar, ál og önnur efni leyst gamla góða stálið hægt og rólega af hólmi. Mesta eftirsjáin hjá mörgum verður þó líklega hvarf „alvöru“ jeppanna sem eru grindarbyggðir með hásingar að framan og aftan. Þetta eru bílar sem byggja á gamalli hönnun þar sem styrkur og ending voru hávegum höfð og umhverfissjónarmið fjarri góðu gamni. Bifreiðin sem var reynsluekin að þessu sinni kemur frá einum
þekktari, ef ekki þekktasta jeppaframleiðanda í heimi, Jeep, sem sameinaðist nýverið PSA Group undir nafninu Stellantis. Jeep varð því um leið hluti af fjórða stærsta bílaframleiðanda heims með 14 merki farteskinu. Í stuttu máli náði Jeep miklum vinsældum eftir síðari heimsstyrjöld þar sem hann hafði sýnt fram á mikla seiglu í krefjandi verkefnum á vegum bandaríska hersins. Í dag eru í framleiðslu átta gerðir undir merkjum Jeep, þar á meðal Cherokee, Compass, Renegade og auðvitað Wranglerinn.
Þrátt fyrir að fyrsti Willys (Jeep) sé orðin 80 ára má enn finna líkindi á milli bifreiða.
Jeep Wrangler kom fyrst fram 1986 og hafa framleiðendurnir síðan þá haldið tryggð við upprunalegt byggingalag og virkni en núverandi kynslóð er sú fjórða í röðinni og kom fram 2017. Þeir hafa greinilega áttað sig á því að til að geta haldið áframhaldandi tryggð neytenda þurfa þeir að draga úr skaðlegum áhrifum á umhverfið. Því hefur hver tegundin af annarri fengiðtengiltvinnuppfærslu og var Wranglerinn þeirra á meðal. Ísband er umboðsaðili fyrir Jeep á Íslandi og að sögn félagsins hefur Wrangler 4xe fengið mjög góðar
móttökur. Boðið er upp á tvær gerðir: Rubicon 4XE fyrir tæpar 9,5 milljónir og síðan Launch Edition. Síðarnefnda útgáfan er milljón krónum dýrari en ríflegur aukabúnaður fylgir með og fær kaupandinn þar mest fyrir féð. Meðal aukabúnaðar er díóðu ljósapakki, uppfærsla á hljómkerfi, innrétting, öryggisbúnaður og fleira. Útlit Framleiðendur Jeep hafa, eins og fyrr segir, verið íhaldsamir á útlit bílsins frá upphafi og lítið verið um stórar breytingar. Wrangler er framleiddur í nokkrum stærðarútgáfum en 4xe sú
stærsta með fimm hurðir. Hvar sem á bílinn er litið er haldið í arfleiðina sem lýsir styrk og einfaldleika. Hurðalamir eru staðsettar að utan verðu og framendinn jafn straumlínulagaður og pappakassi. Bíllinn er útbúinn fjarlægjanlegum T–topp fyrir ofan framsæti og fylgir einföld en hentug taska með bílnum til að geyma toppinn í. Fyrir þá sem vilja fara alla leið í frelsinu er einnig hægt að fjarlægja hurðir, leggja niður framrúðu og taka þakið af bílnum að aftan sem er umtalsvert meiri vinna en að taka fremri toppinn af. Eitt sem ökumenn þurf að hafa í huga að séu framhurðir fjarlægðar fylgja
FÍB-blaðið
39
hliðarspeglarnir með og bíllinn er þá ekki lengur löglegur til aksturs. Hjólboganir eru stórir og bíllinn virðist í raun framleiddur með það í huga að setja undir hann stærri dekk. Að sögn sölumanna hjá Ísband fer 35“ dekk beint undir og lítið þurfi að gera til að koma honum á 37“ sem gerir bílinn mun reistari og notagildið eykst einnig í takt við það. Hönnunarteymið hjá Jeep er greinilega stolt af þessu framlagi sínu sem tvinnbíll en ljósblár litur er áberandi á ytra byrði. jafn á merkingum og dráttaraugum að framan og aftan. Hvort menn séu hrifnir af því skal ósagt látið. Innra rými Það fyrsta sem kemur á óvart er hversu einangraðar hurðarnar eru. Af fenginni reynslu er ekkert létt verk að láta hurðar af þessari hönnun lokast jafn og þétt. Þegar horft er til innréttingarinnar ræður áframhaldandi einfaldleiki ríkjum en með mátulegri snertingu af nútíma gæðum. Hurðarnar eru fremur litlar og tekur smá tíma að venjast inn og útstigi en stigbretti þóttu heldur framarlega svo að góð not yrðu af þeim. Eins og nýjum bílum sæmir þá er 7“ snertiskjár á miðju mælaborði ásamt einum minni á milli mæla. Vegna hönnunar er mælaborðið flatt og stutt fyrir ökumann að ná til
allra stillinga. Stýrið var með helstu stjórnrofum eins og fyrir síma og hraðastilli. Einnig voru þægilegir hnappar beggja vegna á aftanverðu stýrishjólinu sem stjórnuðu hljóðstyrk og skiptu um lög og rásir.
hugsað er til þess að nær allir efri boddyhlutir eru fjarlægjanlegir. Ekkert skrölt var að finna og kom skemmtilega á óvart hversu lítill vindgnauður var í hurðum þrátt fyrir þjóðvega akstur.
Eins og gefur að skilja var restin af innréttingunni mjög einföld þar sem sást í bert stál hvert sem litið var. Loftin voru klætt með einhverskonar harðplasti sem er talið til aukabúnaður en áhugavert hefði verið að sjá teppi eða annað mjúkt efni í loftum til að auka á einangrun og þéttleika. Sætin voru þægileg og fór vel um ökumann og farþega. Ágætt sætispláss er fyrir farþega í aftursæti. Skottið er uppgefið 548 lítrar sem er ásættanlegt þegar horft er til þess að þetta er tvinnbíll sem var upprunalega hannaður með eldsneytisvél í huga.
Veghjóð er töluvert sem má að einhverju leyti skrifa á dekkin en mjög gróf 32“ BF Goodrich Mudtrack dekk koma undir bílnum en þau eru sett undir af Ísband þar sem bíllinn kemur á enn grófari dekkjum og hafa þau þrengra notkunarsvið og vekja að öllum líkindum upp enn frekari veggný.
Það kom á skemmtilega á óvart að Wranglerinn býður upp á tímastillta rafhitun á farþega rými sem þýðir að mótor þarf ekki að ganga til að ná upp hita og þá er einnig hægt að fara út í heitan bíl sem hefur verið kynntur á landrafmagni. Akstur Staldra þarf við áður en ekið er af stað og hugsa um fyrir hvað þessi bíll stendur og hvaða notkun hann er ætlaður. Hljóðeinangrun er ásættanleg, sérstaklega þegar
Wranglerinn er drifinn áfram af tveimur mótorum. Eldsneytismótorinn er tveggja lítra fjögurra–sílendra og túrbóvæddur sem skilar 270 hestöflum og síðan er rafmótor sambyggður átta þrepa sjálfskiptingunni. Samtals er bíllinn að skila 375 hestöflum þegar öllu er tjaldað til. Einnig er lítill mótor framan á mótornum og er hann beltadrifin og sér um að hjálpa til við að ræsa vélina og einnig að hlaða inn á rafhlöður. Þrátt fyrir að bíllinn sé orðinn þyngri vegna rafhlöðu og mótors sprettur hann vel úr spori og skilar sér í 100 á rúmlega 6 sekúndum. Það verður alltaf til einhver fórnarkostnaður þegar menn ætla sér að halda í gamla byggingarlagið með grind og hásingum og finnst
Bíllinn er með öllum helstu þægindum og 7” snertiskjá. Mælaborðið er stutt frá ökumanni og auðvelt er að ná til allra stillinga.
Rafmagnsmótor er innbyggður í 8 þrepa sjálfskiptingu. Rafhlöðurnar eru undir aftursætum í innrými bílsins og því ekki í hættu á að skemmast rekist bíllinn upp undir.
vel fyrir því í þjóðvegaakstri þar sem bíllinn er ekki sá stöðugasti á vegi og krefst meiri athygli ökumanns en búast má við í einföldum fólksbíl og jepplingum. Þyngdin á rafhlöðunni sem er staðsett undir aftursætum bætir í raun aksturgæði þar sem fjöðrun en fremur mjúk í innanbæjarakstri og þyngdardreifing jafnari. Ekki gafst þó tími í að prófa bílinn fullan af fólki og farangri. Hleðslubremsa er á bílnum sem hleður inn á bílinn strax og bensíngjöfinni er sleppt og um leið hægir hann bílinn niður og dregur úr notkun á hemlum. Þennan búnað kannast flestir við sem hafa
ekið rafmagnsbílum og eru flestir sammála um þægindin af honum þegar hann hefur komist í vana. Eina sem mæti setja út á að ökumaður þarf að virkja hleðslubremsuna í hvert sinn sem bíllinn er ræstur. Eyðsla Eins og með alla tengiltvinnbíla er erfitt að áætla rauneyðslu þar sem mun fleiri þættir spila inn í heldur en aksturslag ökumanns. Uppgefin eyðsla á 4xe er 3,5 – 4,1 l/100 km og er það ekki ósennilegt í stuttum ferðum með reglulegri hleðslu þar sem drifrafhlaðan á að geta skilað bílnum allt að 53 km. Hins vegar má búast við því að stór hluti kaupenda
horfi á Wranglerinn sem ferðabíl og þá breytist landslagið hvað varðar eyðsluna. Í reynsluakstrinum var ekið 170 km í þjóðvegaakstri með tóma rafhlöðu og voru eyðslutölurnar í kringum 10.5 til 11 lítrar á 100 km og þá miðað við tóman bíl á upprunalegum 32“ dekkjum. Því ættu hærri tölur ekki að koma á óvart þegar bíllinn tilbúinn í ferðalag með ferðahýsi í eftirdragi. Dráttargeta bílsins er 1508 kg sem þykir kannski ekki svo mikið miðað við afl og stærð en slök dráttargeta virðist haldast í hendur við tengiltvinnútgáfur, óháð framleiðendum.
FÍB-blaðið
41
Jeep Wrangler PHEV Verð: 9.490.000 - 10.490.000 (Launch Edition) Hestöfl: 374 Mótor: 2 lítra turbó bensín + rafmagn Dráttargeta: 1508 kg Tog: 508 NM 0–100 km/klst: 6,4 sekúndur Rafhlaðan: 17,3 kWst Drægni WLTP: 53 km L/B/H: 4.88/1.85/1.89 mm Hjólhaf: 3.008 mm Farangursrými: 548 lítrar Eigin þyngd: 2.334 kg.
Búnaður, aksturhæfni, karakter Umgengni, veghljóð
Skottið er þokkalegt að stærð eða 548 lítrar. Hægt er að leggja niður aftursæti en rafhlöður er geymdar undir þeim og því sitja þau hærra niðurlögð.
Alvöru jeppi
Niðurstaða
Góð ástæða er til að fara yfir þá þætti sem aðgreina Wranglerinn frá öðrum bifreiðum á götunni og gera honum kleift að fara á fjöll beint úr kassanum. Hásingarnar (Dana44) eru útbúnar driflásum jafnt að framan og aftan og eru takkarnir vel auðkenndir með rauðum lita í mælaborði. Þá er hægt að aftengja ballansstöng að framan innan úr bíl til að auka á slaglengd við kerfjandi aðstæður. Það var ánægjulegt að Jeep menn halda sig við einfaldleikan en skiptingin fyrir millikassann er handvirk án hjálpar. Fyrir utan hefðbundna valmöguleika í millikassanum r einnig boðið upp á 4x4 auto sem er að sögn sölumanna ekki í boði í Bandaríkjunum eða Kanada. Í þessari stillingu virkjast fjórhjóladrif eingöngu þegar á þarf að halda. Gírun á lágadrifinu er góð eða 4,10 sem spilar vel með öllu toginu frá rafmagns og eldsneytismótorum.
Hér er á ferðinni bíll sem á fáa sína líka en sá sem kæmist næst því væri mögulega Suzuki Jimny ef það er horft fram hjá öllum aukabúnaði, stærð og um 270 hestöflum.
42
FÍB-blaðið
Því verður ekki neitað að Jeep Wrangler er ekki allra enda eru aðrir Jeep bílar hentugri í að keppa á því sviði. Hins vegar er hér kominn bíll sem er útbúinn beint frá framleiðenda öllu því helsta sem á að prýða góðan ferða- og fjallabíl. Með rafmagninu er búið að auka á notagildi við innanbæjarsnatt og því er auðveldara að réttlæta kaup á rúmlega 10 milljón króna vel útbúnum og hráum jeppa. Þetta er skemmtilegur bíll sem vekur athygli og er hann ekki síður merkilegur fyrir þær sakir að það er ekki öll von úti um að alvöru jeppar haldi lífi við þær öru breytingar sem standa nú yfir í bílahönnun og framleiðslu.
Hleðslutengi er staðsett undir gluggapósti að framan. Bíllinn er grófur í útliti með hurðalamir að utanverðu. Hægt er að fjarlægja hurðar á fremur einfaldan hátt.
Átaki hrint af stað um mikilvægi notkunar öryggisbelta Samgöngustofa hefur hrint af stað átaki sem kallast Smellum saman. Þar er fólk minnt á að nota öryggisbelti og er farin svolítið nýstárleg leið til þess. Í staðinn fyrir að nota hræðslu og daprar staðreyndir er lögð áhersla á jákvæða nálgun, gleði og umhyggju fyrir hvert öðru. Í átakinu lét Samgöngustofa útbúa lag og tónlistarmyndband þar sem Króli og Rakel Björk syngja lagið Smellum saman. Lagið er nokkuð sjálfstætt og fjallar um ástina og lífið ásamt því að undirstrika að öryggið
gefur okkur tækifæri til að njóta lífsins. Eins og við erum öll meðvituð um getur ein laus manneskja í bíl stórslasað aðrar þó þær séu í belti. Því er þetta verkefni sem við þurfum að takast á við saman, allir í bílnum þurfa að smella beltunum – Smellum saman. Munum að vera jákvæð í umferðinni, spennum beltin og verum jákvæð og tillitsöm gangvart samferðafólki okkar í umferðinni.
FÍB-blaðið
43
ökukennsla Rafbílavæðing fólksbílaflotans hefur verið hröð hér á landi — reyndar svo hröð að fyrri hluta árs 2021 var nýskráning rafbíla og bíla sem nota blandaða orkugjafa meiri en jarðefnaeldsneytisbíla.
Rafbílavæðing sést víða – til dæmis eru rafknúnir leigubílar, bílaleigubílar, sendibílar o.s.frv. í umferð og því er eðlilegt spyrja hvort rafbílavæðing kennslubifreiðaflotans sé ekki komin vel á veg. Ökukennarar ala jú upp framtíðarökumenn sem munu innan mjög fárra ára ekki geta keypt sér öðruvísi bifreið en blendings- eða rafbíl vegna stefnu stjórnvalda.
& rafbílar Guðbrandur man reyndar svo langt aftur í ökukennslunni að hann kenndi á fyrsta sjálfskipta bílinn hér á landi árið 1984. Þá var sett inn heimildarákvæði í reglugerð um að læra mætti til ökuprófs á sjálfskipta bíla og var það ekki síst hugsað til hagræðis fyrir eldri nemendur og þá sem væru með líkamlegar fatlanir. Síðan hefur vegur sjálfskiptra bíla einungis aukist í ökukennslu. Guðbrandur telur að þess sé skammt að bíða að flestir kennslubílar hér á landi verði rafknúnir. Sífellt fleiri ökukennarar lýsa því yfir að þeir séu búnir að kaupa sinn síðasta „brunabíl“. Drægni rafbíla og verð þeirra verður sífellt hagkvæmara og til dæmis um hversu drægnin hefur aukist segist hann geta kennt allan daginn á nýja kennslubílinn á einni hleðslu en sá eldri entist einungis í fáeina tíma á milli þess að stinga þurfti honum í samband. Aðspurður um rekstrarkostnað sagði Guðbrandur að hann væri ekki mikill samanborið við bíl með sprengihreyfli.
Guðbrandur Bogason ökukennari varð á vegi tíðindamanns „Molanna“. Hann hefur verið ökukennari í áratugi og tekið þátt í mótun ökukennarastarfsins nánast jafnlengi. Hann hefur verið í forystu fyrir Ökukennarafélagið og unnið að framfaramálum stéttarinnar og gæða íslensks ökunáms að ógleymdum umferðaröryggismálum almennt. Guðbrandur hefur kennt á rafbíla frá 2017 og er nýbúinn að endurnýja og er kominn á splunkunýjan rafdrifinn Benz EQA sem leysti af hólmi eldri rafdrifinn Benz–kennslubíl. Aðspurður sagði Guðbrandur að ökunemar ættu almennt mjög auðvelt með að átta sig á tæknibúnaði bíla eins og þeim sem hann kennir á. Bílarnir séu þægilegir við Guðbrandur Bogason ökukennari að eiga sökum þess að þeir eru sjálfskiptir og neminn getur því einbeitt sér að því tileinka sér góða aksturssiði og læra vel á umferðina í Guðbrandur, sem er að verða 78 ára gamall, kennir enn stað þess að þurfa að eyða drjúgum tíma í að ná tökum og þykir gaman að. Hann líkar vel við samskiptin við á kúplingunni og gírskiptingunni. Þótt Guðbrandur sé nemendur og kann vel tökin á að kenna þeim listina að frumkvöðull í kennslu á sjálfskipta bíla, og í raun með vera góðir bílstjórar. FÍB árnar Guðbrandi, félagsmanni þeim fyrstu til að kenna á rafmagnsbíl, á hann í vopnabúri FÍB nr. 4602, velfarnaðar og þakkar honum ötul störf hans sínu eðalbensínbíl sem hann kennir einnig á. í þágu umferðarmála og umferðaröryggis. 44
FÍB-blaðið
Átta nýir rafbílar frá
Mercedes Benz
fyrir árslok 2022 Mercedes–Benz ætlar sér að vera leiðandi í þróun rafbíla á heimsvísu og hefur þýski bílaframleiðandinn nú tilkynnt áætlanir að kynna átta nýja rafbíla fyrir árslok 2022. Þessi hröðun er hluti af áætlun sem félagið kallar Ambition 2039 og miðar að því að rafbílar verði 50% af seldum bílum árið 2030 og árið 2039 verði allir bílar kolefnislausir. Hinu nýju rafbílar munu allir bera EQ nafnið sem er nýtt undirmerki Mercedes, tileinkað raf- og tengiltvinnbílum.
ganga til liðs við núverandi rafbíla frá Mercedes–Benz, EQC, EQV og eVito Tourer en þeir tveir síðarnefndu voru frumsýndir fyrir stuttu hjá Bílaumboðinu Öskju. Sportjeppinn EQC var fyrsti hreini rafbíll Mercedes–Benz en hann kom á markað í fyrra og hefur fengið góða dóma. Daimler AG (eigandi Mercedes–Benz) hefur nýlega fjárfest fyrir alls 730 milljónir evra í verksmiðju sem mun einblína á framleiðslu á rafbílum frá Mercedes–Benz, en það samsvarar um 118 milljörðum króna. Verksmiðjan er í Sindelfingen í Þýskalandi þar sem fleiri verksmiðjur félagsins eru staðsettar og hefur fengið heitið „Verksmiðja 56“. Alls hefur Daimler fjárfest fyrir 2,1 milljarð evra á Sindelfingen–svæðinu eða fyrir tæpa 340 milljarða króna.
Nýr EQA kemur hingað til landsins í byrjun árs en bíllinn var frumsýndur í hugmyndaútfærslu árið 2017 og kemur nú í fjöldaframleiðslu. EQA er hreinn rafbíll og verður með yfir 400 km drægni samkvæmt WLTP–staðli. Aðrir bílar í farvatninu eru EQS, EQB, EQE, EQS SUV og EQE SUV. Af þeim koma EQA, EQB og lúxusrafbíllinn EQS þegar á næsta ári en sá síðastnefndi verður nýtt flaggskip rafbílaflota Mercedes–Benz. Þeir munu
Rafbíllinn er fyrsti kostur hjá stórum hluta Norðmanna Norsk könnun leiðir í ljós að tveir af hverjum þremur svarendum í Noregi telja að nýorkubíll verði næstur fyrir valinu í bifreiðakaupum. Um 65% Norðmanna svara því að rafbíll verði fyrsti kostur á næstu árum. Áhuginn er mestur hjá yngra fólki og þeim sem hafa meiri menntun og hærri tekjur. Í aldurshópnum 34–49 ára svara allt að 76% því til að rafbíll verði fyrir valinu við næstu kaup. Í könnuninni kemur þó fram að dísil- og bensínbílaeigendur sveiflist fram og til baka í ákvörðunum sínum en íhugi á sama tíma að kaup á rafbíl væri skynsamur kostur sem mætti skoða frekar. Þeir sem búa á landsbyggðinni eru hlynntari rafbílum en hinir sem dvelja í borgum. Flest landsbyggðarfólk í Noregi ekur um á dísilbílum en nú hefur áhugi á rafbílum aukist til muna. Í könnuninni kemur fram að með hærri tekjum eykst áhugi fyrir kaupum á rafbíl frekar en jarðefnaeldsneytisbíl. Á síðasta ári var sala á rafbílum í Noregi tvöfalt meiri en á öðrum bílum. Markaðshlutdeild rafbíla var aðeins 1% í Noregi fyrir rétt rúmum áratug. Norska rafbílasambandið áætlar að rafbílar nái 65% markaðshlutdeild á þessu ári. Í Evrópu tvöfaldaðist sala á rafbílum annað árið í röð 2020. Í Þýskalandi voru rafbílar 20% þeirra bíla sem voru seldir í fyrra í Þýskalandi og um 15% í Bretlandi og Frakklandi. Alls seldust 1,4 milljónir nýrra rafbíla í Evrópu 2020 eða sem samsvarar 8% allra seldra bifreiða. Búist er við að markaðshlutdeildin í Evrópu tæplega tvöfaldist á þessu ári og verði 15%. FÍB-blaðið
45
Regluleg ryðvörn
Mikilvægur þáttur í endingu bílsins Góð og regluleg ryðvörn er einn af mikilvægustu þáttum í endingu bíla. Í söluskoðun á notuðum bílum kemur oft í ljós að reglulegri ryðvörn hefur ekki verið viðhaldið. Þá finnst stundum ryð í undirvagni sem kemur niður á endursöluverðmæti bílsins. Ryðvörn skilar sér síðar meir í rekstrinum og ekki síst þegar bíllinn er seldur. Oft er sagt að fyrsta ryðvörnin sé sú mikilvægasta en hún innsiglar og ver þá staði í bílnum sem ekki voru ryðvarðir af hendi verksmiðjunnar. Bílar eru vissulega misjafnlega ryðsæknir en jafnframt kemur einnig til notkun bílsins og hvernig og hvar honum er ekið. Af þessum þáttum beri að hafa hliðsjón þegar hugað er að endurryðvörn bílsins. Góð ryðvörn í upphafi lengir líf bæði yfirbyggingar og undirvagns, hemlaröra og slíks. Eðlileg endurnýjun hennar skilar því betri og öruggari bíl, lægri viðhaldskostnaði og hærra endursöluverði.
Ryð getur verið vel falið vandamál í innanverðum grindum og bitum. Að lokum nær það að vinna sig í gegnum stálið og brýst út með tilheyrandi vandamálum og kostnaði.
Ryðvandamál er eitt af helstu ágreiningsefnum vegna kaupa á notuðum bílum sem koma inn á borð FÍB. Því er mikilvægt að skoða bílinn vel áður en gengið er frá kaupum. 46
FÍB-blaðið
Tæring eða ryð algeng athugasemd við söluskoðun Ein algengasta athugasemdir við söluskoðun á notuðum bílum er tæring eða ryð í undirvagni. Þetta dregur mjög úr endursöluverði bílsins enda er fagmannleg og regluleg ryðvörn mikilvæg fyrir endingu hans. Á Íslandi er selta og sérstakar aðstæður á götum yfir vetrartímann sem verja þarf bílinn fyrir og engar tvær bílategundir eru eins. Jón Ragnarsson stofnaði Bílahöllina – Bílaryðvörn ehf árið 1970 og starfar í fyrirtækinu ásamt sonum sínum tveimur, Baldri og Rúnari. Bílaryðvörnin er rekin á sama stað og bílasalan Bílahöllin, að Bíldshöfða 5. Samhliða ryðvörninni er boðið upp á heithúðun fyrir pallbíla, hestakerrur og á slitfleti sem mæðir mikið á. Bílaryðvörn notar hágæða ryðvarnarefnið Dintrol en til að verja undirvagn þarf þrjár til fjórar gerðir af efnum eftir því hvar borið er á. Í lokuð hólf fer til t.d. fituvaxefni sem er alltaf lifandi og mjúkt. Það þýðir hins vegar lítið að setja slíkt efni undir botninn þar sem mesta álagið er því að það skolast og fljótt í burtu. Slitsterk efni eru notuð á botninn og eru þau jafnframt hönnuð til að veita hljóðeinangrun. Bílar sem ekki fara í ryðvörn fara mun fyrr en þeir sem fara reglulega í þessa meðferð „Það er margbúið að sanna sig að ryðvörn er mikilvægur þáttur í umhirðu og rekstri bílsins á allan hátt. Bílar sem ekki fara í ryðvörn munu ryðga fyrr en hinir. Það eru nokkur umboð sem láta ryðverja alla bíla og láta ekki
verksmiðju ryðvörnina duga. Ég er með gott dæmi um 21 árs gamlan bíl, sem ég á sjálfur, og hef látið ryðverja fimm sinnum er alveg eins og nýr,“ segir Jón Ragnarsson í spjalli við FÍB–blaðið. Aðspurður hvort bíleigendur séu almennt meðvitaðir um mikilvægi ryðvarnar segir Jón að svo sé. Aðstæður hér á landi eru oft erfiðar, salt er á götum og hitastig er breytilegt. Jón leggur áherslu á að góð ryðvörn skilar sér margfalt þegar upp er staðið. „Það skiptir máli að nota góð efni en við notum sænskt úrvalsefni frá Dintrol sem hefur sýnt sig og sannað í gegnum tíðina. Menn verða að hafa í huga að það er ekki bara nóg að ryðverja í upphafi. Það er mjög gott að taka undirvagna á 3-4 ára fresti, hurðar, dyrastafi og annað innvols á 6-8 ára fresti. Ef þessu eru fylgt eftir er bíllinn í góðum málum, hann endist mun betur en ella,“ segir Jón. Hvað kostar að ryðverja bíl í dag? „Verðið fyrir meðalstóran jeppa er um 70 þúsund krónur. Verð fyrir minni fólksbíla er 50–55 þúsund sem kallast ekki mikið miðað við verðgildi bílsins.“ Grindur sem ekki eru ryðvarðar fara illa „Að mínu mati eru bíleigendur ekki að huga að ryðvörn með sama hætti og fyrir einhverjum árum síðan. Sumar verksmiðjur eru að gefa út að bíllinn sé með ryðvörn frá þeim en hún dugar skammt. Ryðvörnin frá verksmiðjunum er langt í frá eins og góð og þegar ég var að byrja í þessum bransa fyrir yfir 50 árum. Reynslan hefur sýnt okkur að bílar sem hafa verið ryðvarnir hjá okkur fáum við aldrei til baka í einhverjum vandamálum. Jeppar, grindur sérstaklega, sem ekki hafa verið ryðvarðir, hafa farið illa á 5–7 árum. Bílar sem ætlast er til að endist í 10–15 ár gera það ekki án ryðvarnar. Það er alveg ljóst,“ segir Jón. Jón segir gríðarlega mikið að gera þótt einhver umboðanna láti ekki ryðverja. Það er biðlisti í endurryðvörn en reynt sé að taka alla nýja bíla strax inn. Aka um á dýrum bílum og spara sér ryðvörnina er ekki skynsamlegt „Það skilar sér tvímælalaust í endursölu á bílnum að huga vel að ryðvörninni, ekki síður en að bóna og þrífa vel reglulega. Að aka um á dýrum bílum og spara sér síðan ryðvörnina er ekki skynsamlegt að mínu mati. Margir sérfræðingur eru sammála um að verksmiðjuryðvörnin ein og sér dugi ekki.“ FÍB-blaðið
47
Ökumenn í vanda þegar ekkert varadekk er í bílnum Páll Heiðar Hauksson bifvélavirki annast FÍB–aðstoð á sunnanverðum Vestfjörðum en samhliða því er hann eigandi Bílaverkstæðisins Smur og Dekk við Mikladalsveg 11 á Patreksfirði. Páll hefur rekið verkstæðið í yfir 20 ár. Hann sagði í samtali við FÍB-blaðið að í nógu að snúast allt árið um kring. Það segi sig alveg sjálft að mest er að gera í aðstoðinni yfir sumartímann þegar ferðamenn leggja af stað í sumarfrí. Nú þegar má merkja aukin straum ferðamanna á svæðinu.
„Ein er aðstoðin sem aukist hefur töluvert á síðustu árum en hún lítur að því að ökumenn hafi ekki varadekk í bílum sínum þegar dekk springur en nú orðið fylgir ekki varadekk með nýjum bílum. Margir ökumenn eru bara ekkert að spá í þetta og svo þegar vandinn kemur
upp er fátt annað í stöðinni en að leita til okkar og fá aðstoð. Við bregðumst skjótt við, mætum á staðinn með rétt dekk undir bílinn og komum honum af stað aftur. Ökumenn eru svo þakklátir þegar við höfum leyst vandamálið og þeir geta haldið ferð sinni áfram.
„Við erum vel búnir tækjum eins og aflestrar- og bilanagreingatölvum. Við önnumst almennar bílaviðgerðir og mætum óskum þeirra sem til okkar leita af kostgæfni. Við erum vel tækjum búnir, bjóðum upp á dráttarbílaþjónustu og svo höfum einnig til reiðu öflugan jeppa með spili á 37 tommu dekkjum,“ segir Páll. Páll sagðist vera búinn að annast FÍB-aðstoðina í yfir 10 ár. Margt hefur breyst á þessum tíma en alltaf væri jafn gefandi og koma fólki til aðstoðar og greiða úr vandamálunum sem upp koma.
Páll Heiðar Hauksson bifvélavirki
Við erum alltaf til þjónustu reiðubúnir og leggjum okkur fram að leysa vandamálin sem upp koma. Við tökum eftir auknum ferðamannastraumi á svæðinu og það má vera ljóst að Íslendingar ætla að ferðast um landið sitt sumar,“ sagði Páll Heiðar Hauksson í samtali við FÍB–blaðið.
Rúm tvö ár eru síðan Smur og dekk fluttust í nýtt og stærra húsnæði við Mikladalsveg 11
48
FÍB-blaðið
Hámarki olíuframleiðslu hefur verið náð Hámarks olíuframleiðslu hefur verið náð að mati olíufyrirtækisins Royal Dutch Shell. Fram kemur að því hafi reyndar verið náð 2019 og verður annað eins magn aldrei framleitt aftur, miðað við útlitið eins og það er í dag. Í umfjöllun kemur enn fremur í ljós að losun koltvísýrings hafi náð hámarki árið 2018, þar sem 1,7 gígatonnum af koltvísýringi var sleppt út í andrúmsloftið. Shell stendur ekki einungis frammi fyrir þessum breytingum því að önnur olíufyrirtæki hafa afskrifað eignir í eigin uppgjörum og tap í rekstri er töluvert. Nýorkubílum fjölgar jafn og þétt, sérstaklega þó á Norðurlöndum og víða í Evrópu. Sala á rafbílum hefur einnig tekið mikinn kipp í Asíu. Þegar sala á bensíni og dísilolíu minnkar til lengri tíma litið er mikilvægt fyrir olíurisana að laga sig að aðstæðum. Shell hefur í hyggju að fjölga rafhleðslustöðvum um fimm hundruð þúsund fyrir 2025. Í tilkynningu félagsins koma fram áform um mikla fjárfestingu í „nýjum orkuafurðum“ með enga hreina losun koltvísýrings árið 2050. Fyrr á þessu ári keypti Shell einnig fyrirtæki sem þróar svokallaða „ljósastaurahleðslu“ á rafbílum. Keppinauturinn OKQ8 mun smíða 800 ný hraðhleðslutæki fyrir rafbíla á 300 stöðvum keðjunnar. „Við verðum að veita viðskiptavinum okkar þær vörur og þjónustu sem þeir vilja og þurfa, vörur sem hafa sem minnst umhverfisáhrif,“ segir Ben van Beurden, yfirmaður Royal Dutch Shell.
Smíðum bíllykla Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Tímapantanir óþarfar
510-8888 – Skemmuvegur 4 - 200 Kópavogi
Sundabraut er einkaframkvæmd sem á að dreifa álagi og leysa umferðarhnúta – innheimta á vegtoll Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu nýlega yfirlýsingu um lagningu Sundabrautar. Stefnt er að því að framkvæmdir við þetta mannvirki hefjist árið 2026 og að brautin verði tekin í notkun árið 2031. Sundabraut verður lögð alla leið að Kjalarnesi í einni samfelldri framkvæmd til að ná markmiðum verkefnisins og beina umferð ekki óhóflega um íbúahverfi Grafarvogs. Alþjóðleg hönnunarsamkeppni verður um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. Næsta skref er félagshagfræðileg greining á þverun Kleppsvíkur en að henni lokinni verður hafist handa við að undirbúa breytingar á aðalskipulagi borgarinnar, varðandi endanlegt leiðarval Sundabrautar.
höfuðborgarsvæðinu og alla ferðamáta. Brúin á einnig að vera aðgengileg fyrir gangandi og hjólandi og kennileiti í borgarlandinu. Nú er góður tími til að fara í opinberar framkvæmdir, sem skapa atvinnu og auka hagvöxt í landinu. Dagur B. Eggertsson sagðist við sama tækifæri fagna þessari yfirlýsingu. Það væri mikilvægt að leiðarval og undirbúningur Sundabrautar væri í traustum og góðum farvegi og unnið í víðtæku samráði. Yfirlýsingin tryggir mikilvægi samráðs við íbúa og hagsmunaaðila. Yfirlýsingin tryggir einnig hagsmuni almenningssamgangna, gangandi og hjólandi og hafnarstarfseminnar.
Sundabraut var ekki hluti af framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans en í sáttmálanum segir að sérstaklega skuli huga að greiðri tengingu aðliggjandi stofnbrauta, svo sem Sundabrautar, inn á stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins.
Í vetur var kynnt skýrsla starfshóps um legu Sundabrautar. Í starfshópnum sátu fulltrúar Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóahafna. FÍB telur miður og til marks um lýðræðishalla að fulltrúi neytenda og vegfarenda var ekki kallaður til samstarfs við starfshópinn. Metnir voru tveir valkostir við þverun Kleppsvíkur, annars vegar Sundabrú sem tengist Sæbraut til móts við Holtaveg og hins vegar Sundagöng.
Sigurður Ingi Jóhannsson sagði við undirritunina að Sundabraut dreifði álagi, leysti umferðarhnúta og væri gríðarleg samgöngubót fyrir alla vegfarendur til og frá
Niðurstaða hópsins var að Sundabrú væri um 14 milljarða króna ódýrari kostur en Sundagöng miðað við frumkostnaðaráætlun en auk þess hefði brúin
ýmis jákvæð áhrif umfram göngin, s.s. á heildarakstur og tímasparnað umferðar á höfuðborgarsvæðinu, almenningssamgöngur, hjóla- og gönguleiðir. Jarðgöng myndu hafa minni sjónræn áhrif en brúin en meiri áhrif á hafnarstarfsemi á framkvæmdatíma. Breytingar á aðalskipulagi Að lokinni félagshagfræðilegri greiningu verður hafist handa við að undirbúa breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur sem feli í sér endanlegt leiðarval Sundabrautar. Stuðst verður við umhverfismat framkvæmdarinnar og rík áhersla lögð á samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila í öllum þáttum skipulags og umhverfismats. Einnig segir að tryggja eigi góðar hjólasamgöngur upp á Kjalarnes og að ríkar kröfur verða gerðar til útlits og ásýndar Sundabrautar. Vegtollar
Dagur B. Eggertsson og SIgurður Ingi Jóhannsson undirrita yfirlýsingu um lagningu Sundabrautar
Í yfirlýsingunni er staðfest að Sundabraut verði fjármögnuð með veggjöldum og að ekki sé gert ráð fyrir fjármögnun úr ríkissjóði. Vegfarendur eiga að borga rúllugjald til viðbótar við háa bílaskatta. Sundabraut er meðal sex samgöngumannvirkja í lögum um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Heimilað er að eiga samvinnu við einkaaðila um fjármögnun, hönnun, undirbúning og framkvæmdir ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Gjaldtaka á ekki að hefjast fyrr en framkvæmdum lýkur og stendur að hámarki í 30 ár. Einnig er kveðið á um að tengingar Sundabrautar við gatna- og stígakerfi borgarinnar, sem leiða af framkvæmdinni, greiðist af Sundabrautarverkefninu en ekki úr borgarsjóði. Hvorki liggur fyrir áætlun um upphæð vegtollsins né hvort hann gildi um alla vegfarendur.
Bensínstöðvar víkja fyrir íbúðum og atvinnuhúsnæði Borgarráð hefur samþykkt að ganga til samninga við rekstraraðila bensínstöðva um fækkun þeirra. Skrifað var undir samning við Festi og Krónuna (N1), Olíuverslun Íslands og Haga (Olís) og Skeljung (Orkuna) um nýtt hlutverk bensínstöðvalóða í eigu þeirra. Olíufélögin munu sjá um framtíð eða sölu eigin lóða en með það fyrir augum að lóðirnar nýtist undir íbúðir og atvinnuhúsnæði. Á fimmta tug bensínstöðva eru í Reykjavík og búa þær yfir landrými sem gæti hýst allt að 1400 íbúðir. Með nýrri samþykkt er í upphafi horft til 12 stöðva í íbúðarhverfum víðs vegar um borgina þar sem reisa má a.m.k. 500 íbúðir. Búist er við að uppbygging hefjist á næstu árum.
Á lóðunum eru hugmyndir um að þar rísi íbúðarhúsnæði með eða án atvinnuhúsnæðis á jarðhæð. Með fækkun stöðva fækkar eldsneytissölum í íbúðabyggð en stöðvar verða áfram starfræktar einkum við stærri umferðargötur. Jarðefnaeldsneytisdælum fækkar úr 109 í 73 eða um 33%. Til viðbótar við lóðir á neðangreindum bensínstöðvum er samið við Haga um fjölorkustöð á Esjumelum og uppbyggingu á lóð við Stekkjarbakka 4–6 þar sem mögulega verða til uppbyggingarmöguleikar fyrir um 200–300 íbúðir.
Nú er samið um eftirtaldar stöðvar: Álfheimar 49 Álfabakki 7 Egilsgata 5 Ægisíða 102 Hringbraut 12 Stóragerði 40 Skógarsel 10 Elliðabraut 2 Rofabær 39 Birkimelur 1 Skógarhlíð 16 Suðurfelli 4
FÍB-blaðið
51
700 milljónum varið í umferðaröryggisaðgerðir Alls verður 700 milljónum króna af viðhaldsfé Vegagerðarinnar í ár varið til verkefna tengdum umferðaröryggisáætlun stjórnvalda. Það er jákvætt og í anda baráttu FÍB að samgönguyfirvöld leggi aukna áherslu á umferðaröryggi og endurbætur á vegakerfinu í þeim tilgangi. Stærri umferðaröryggisaðgerðir, s.s. aðgreining akstursstefna, breikkun einbreiðra brúa og gerð hringtorga, fá sérstakar fjárveitingar af stofnkostnaðarlið samgönguáætlunar.
Árlega hefur hluta viðhaldsfjárveitinga verið ráðstafað til verkefna Vegagerðarinnar sem tilheyra umferðaröryggisáætlun og í ár eru það 700 milljónir króna. Unnið verður að lagfæringu á umhverfi vega og uppsetningu vegriða. Meira en helmingur alvarlegustu slysa á þjóðvegum í dreifbýli verður við útafakstur. Samkvæmt núgildandi veghönnunarreglum skal vera öryggissvæði af ákveðinni breidd næst vegi sem er þannig útfært að þar séu ekki hættur, hættulegar hindranir eða mikill bratti. Þegar farið er í lagfæringar til að tryggja öryggissvæði er uppsetning vegriðs aldrei fyrsti kostur, fyrst er leitað leiða til að lagfæra umhverfi vegarins á annan hátt, með því að draga úr bratta, fláa vegkants, eða lengja ræsi þannig að kröfur um öryggissvæði séu uppfylltar. Sama á við um fyllingu skurða og brottnám stórgrýtis. Stöðugt er verið að bæta öryggi gangandi vegfarenda þar sem þjóðvegir liggja um þéttbýli. Þetta er gert með hraðatakmarkandi aðgerðum, öruggari gönguþverunum og uppsetningu hraðaviðvörunarljósa. Vegagerðin sér um rekstur hraðamyndavéla víða um land í samstarfi við lögreglu og aðra aðila.
Vegrið með öryggisenda á Hringvegi við brú yfir Karlsá í Lóni. Mynd: Vegagerðin
Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að framkvæmdir eins og á Hringvegi um Kjalarnes, þar sem akstursstefnur eru aðgreindar og tengingum inn á veg fækkað með hliðarvegum, skila sér í auknu umferðaröryggi. Sama má segja um breikkun einbreiðra brúa á umferðarmiklum og slysaþungum stöðum. Stórar framkvæmdir skipta máli og auka umferðaröryggi og einnig minni, ódýrari aðgerðir. Þetta hefur verið sérstök áhersla hjá FÍB og ítrekað komið á framfæri m.a. í tengslum við EuroRAP öryggisútektir félagsins á vegum landsins.
Vegrið með öryggisenda á Hringvegi við brú yfir Karlsá í Lóni. Mynd: Vegagerðin
Öryggi nokkurra vegamóta verður aukið í ár. Vegamót Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar verða endurbætt og settar verða hjáreinar við fimm tengingar við Hringveg austan Akrafjalls en þær auka öryggi þeirra sem ætla að beygja af aðalvegi inn á hliðarveg.
Hraðahindrandi aðgerð á Hringvegi við innkomu í Hvolsvöll Mynd: Vegagerðin
52
FÍB-blaðið
Bættar merkingar skipta miklu máli m.a. til að vekja athygli á vegamótum fram undan eða til að undirstrika stefnubreytingu vegar með því að setja upp beygjuörvar.
Helstu aðgerðir Vegagerðarinnar 2021 sem tengjast umferðaröryggisáætlun beint Lagfæringar á umhverfi vega og/eða uppsetning vegriða: • Hringvegur nokkru vestan við Foss á Síðu, uppsetning vegriðs við óvarið ræsi neðan vegar. • Hringvegur vestan Víkur í Mýrdal, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í að draga úr bratta vegfláa. • Hringvegur út frá Ölfusárbrú, endurnýjun vegriðs meðfram vegi, ármegin. • Hringvegur um Kollafjörð, endurnýjun vegriða. • Hringvegur við steinvegg í Kollafirði, uppsetning vegriðs. • Skeiða- og Hrunamannavegur ofan Hlemmiskeiðs, lenging ræsa og lagfæringar á fláa við ræsin. • Þjórsárdalsvegur milli vegamóta við Skeiða- og Hrunamannaveg og Árness, ýmsar lagfæringar á öryggissvæði. • Eyrarbakkavegur út frá Óseyrarbrú, endurnýjun vegriðs meðfram vegi vestan brúar. • Biskupstungnabraut, ýmsar lagfæringar á öryggissvæði, frh. • Þingvallavegur frá Vinaskógi (í grennd við Kárastaði) að Grafningsvegi efri, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar. • Þingvallavegur milli Grafningsvegar efri og Kjósarskarðsvegar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. • Þingvallavegur í grennd við Seljabrekku, lagfæring öryggissvæðis sem felst í því að fylla í skurð. • Laugarvatnsvegur ofan Laugarvatns, lenging nokkurra ræsa og lagfæring fláa við ræsin. • Krýsuvíkurvegur við Kleifarvatn, uppsetning vegriðs, frh. • Hvalfjarðarvegur við sunnanverðan Hvalfjörð, lenging sex ræsa og fleiri lagfæringar á umhverfi vegar. • Nesvegur í grennd við Grindavík, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í að draga úr bratta vegfláa. • Sandgerðisvegur við Miðnesheiðarveg, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast fyrst og fremst í grjóthreinsun. • Hringvegur austan Akrafjalls, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, fjórði áfangi. • Hringvegur undir Hafnarfjalli, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. • Hringvegur milli Hvítárvallavegar og Borgarfjarðarbrautar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, fjórði áfangi. • Akrafjallsvegur norðan Akrafjalls, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. • Snæfellsnesvegur milli Búlandshöfða og Grundarfjarðar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, frh. • Heydalsvegur um Haffjarðardalsgil, uppsetning vegriðs við stórt óvarið ræsi. • Vestfjarðavegur um Svínadal, uppsetning vegriðs, fyrsti áfangi. Verkefnið átti að hefjast árið 2020 en frestaðist. • Djúpvegur um Skötufjörð, uppsetning vegriðs, frh. • Djúpvegur í Hestfirði, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í endurmótun skeringar í þeim tilgangi að draga úr hættu á grjóthruni, frh.
• Hringvegur í Hrútafirði, lagfæringar á umhverfi vegar, þriðji áfangi. Lagfæringar felast í lengingu ræsa og lagfæringum á fláa ofan vegar en uppsetningu vegriðs neðan vegar. • Hringvegur við Litlu-Giljá, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í að mýkja fláa á heimreið að Litlu-Giljá. • Hringvegur um Langadal og Vatnsskarð, frh. Lagfæring fláa og uppsetning vegriða, m.a. þar sem Svartá liggur nálægt vegi. • Hringvegur um Blönduhlíð. Lagfæringar á umhverfi vegar sem m.a. felast í að fylla í skurði. Verkefnið var á áætlun árið 2020 en frestaðist þar sem ekki náðist að ljúka samningum við landeigendur. • Hringvegur um Öxnadalsheiði, lenging vegriðs. • Hringvegur við Másvatn. Uppsetning vegriðs þar sem vegur liggur nálægt vatni. • Hringvegur við Laxá, uppsetning vegriðs. • Ólafsfjarðarvegur milli Hringvegar og Hauganesvegar, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, fyrsti áfangi. Verkefnið var á áætlun 2020 og efni var keypt en framkvæmd frestaðist. • Ólafsfjarðarvegur milli Hauganesvegar og Dalvíkur, ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, annar áfangi. • Hvammavegur í Þingeyjarsveit, uppsetning vegriðs í krappri beygju. • Laxárdalsvegur við Laxárgljúfur, uppsetning vegriðs. • Hringvegur um Fagradal. Ýmsar lagfæringar á umhverfi vegar, frh. • Hringvegur við Tóftá í Stöðvarfirði, lenging ræsis ofan vegar og uppsetning vegriðs neðan vegar. • Hringvegur í Álftafirði, uppsetning vegriðs við tvö óvarin ræsi/steypta stokka. • Hringvegur við Hvalnes, uppsetning vegriðs, annar áfangi. • Hringvegur sunnan Háöldu í Öræfum, lagfæringar á umhverfi vegar sem felast í að bæta efni í vegfláa og draga þar með úr bratta hans. • Hringvegur um Skeiðarársand, lenging ræsa, frh. • Norðfjarðarvegur á Hólmahálsi, milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, lenging vegriðs. • Lagarfossvegur við Lagarfoss, uppsetning vegriðs. Lagfæring vegamóta: • Hringvegur við Reynishverfisveg, gerð hægri beygju fleygs. • Skeiða- og Hrunamannavegur við Hrunaveg á Flúðum, útfærsla vegamóta lagfærð. • Eyrarbakkavegur við Þorlákshafnarveg, stefnugreining vegamóta. • Fljótshlíðarvegur við Lambalækjarveg, færsla Lambalækjarvegar til að auka öryggi vegamótanna. • Hringvegur austan Akrafjalls. Gerð hjáreina við fimm tengingar. Búfjár- og reiðgöng: • Hringvegur undir Eyjafjöllum, milli Núps og Hvamms, gerð búfjárræsis. • Biskupstungnabraut við Myrkholt, gerð reiðganga, frh.
Sérstakar aðgerðir við áningarstaði: • Hringvegur við áningarstað í Eldhrauni, framhald aðgerða frá 2020 sem fólust í að bæta tengingu að áningarstaðnum með gerð hægri beygju fleygs. • Öryggisaðgerðir í þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni og víðar þar sem mikið er um umferð gangandi fólks og einnig á fleiri stöðum þar sem leyfilegur hámarkshraði hefur verið lækkaður af einhverjum ástæðum: • Hringvegur við Þingborg, uppsetning hraðaviðvörunarljósa. • Hringvegur um Selfoss. Aðgerðir sem felast í setja þrengingar við átta gangbrautir í þeim tilgangi að koma í veg fyrir framúrakstur. Einnig verður lýsing við gangbrautirnar bætt. • Fljótshlíðarvegur Hvolsvelli, gerð upphækkuð gangbraut með lýsingu. • Djúpvegur Ísafirði, við hringtorg móts við kirkju, bætt lýsing við þrjár gangbrautir. • Flateyrarvegur við innkomu í bæinn, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Innnesvegur sunnan Leynisbrautar á Akranesi, upphækkuð gönguþverun og uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Útnesvegur vestan Ólafsvíkur. Breyting á kantsteinum og miðeyjum og uppsetning gagnvirkrar hraðahindrunar. Tilraunaverkefni. • Þingeyrarvegur við innkomu í bæinn, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Drangsnesvegur, hraðahindrandi aðgerðir, annar áfangi. • Hringvegur sunnan Varmahlíðar, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Hringvegur norðan við afleggjara að leikskóla við Lónsbakka, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Hringvegur norðan við innkomu í þéttbýli Reykjahlíðar, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Hvammstangavegur við innkomu í Hvammstanga, uppsetning hraðaviðvörunarljósa. • Grenivíkurvegur við innkomu í bæinn, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Mývatnssveitarvegur við Skútustaði, stýring gangandi umferðar. Verkefnið var á áætlun 2020 en frestaðist. • Þórshafnarvegur við innkomu í bæinn, uppsetning hraðaviðvörunarljóss. • Hringvegur við Jökulsá á Breiðamerkursandi, uppsetning hraðaviðvörunarljósa. • Borgarfjarðarvegur um Eiðar, uppsetning hraðaviðvörunarljósa. • Djúpavogsvegur við innkomu í bæinn, hraðahindrandi aðgerðir, annar áfangi. Verkefni sem tengjast kaupum á hraðamyndavélum og rekstri sjálfvirks hraðaeftirlits: • Hraða- og rauðljósamyndavél til notkunar við gatnamót á Hringvegi um Akureyri. Verkefnið felst í að ljúka vinnu við gangsetningu myndavélarinnar sem keypt var árið 2020. • Fram kemur hjá Vegagerðinni að ofangreindur listi er ekki tæmandi, víða verða merkingar bættar og auk þess fá þjónustustöðvar Vegagerðarinnar sérstakar fjárveitingar til ýmissa aðgerða svo að eitthvað sé nefnt.
54
FÍB-blaðið
FÍB-blaðið
55
MIKIÐ ÚRVAL AF ALLSKONAR VÖRUM KROON OIL VÖRUR KERRUR
REIÐHJÓLAFESTINGAR
RAFGEYMAR
BÓN- OG HREINSIVÖRUR
FARANGURSBOX
MOTIP VÖRUR FERÐAVÖRUR
RAFMAGNS HLAUPAHJÓL
STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 12 110 REYKJAVÍK S. 535 9000
Vatnagörðum 12 104 Reykjavík S. 535 9000
Dalshrauni 17 220 Hafnarfirði S. 555 4800
Hafnargötu 52 260 Reykjanesbæ S. 421 7510
Hrísmýri 7 800 Selfossi S. 482 4200
Furuvöllum 15 600 Akureyri S. 535 9085
Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 471 1244