Skip to main content

FÍB Blaðið 1. tbl. 2022

Page 1

1.tbl. 2022

Neytendavernd bíleigenda er með ólíkindum léleg Bílaleigubíll Íslendings í Danmörku gerður upptækur

SAMANTEKT

NÝIR BÍLAR 2022

Reynsluakstur Hyundai Ioniq 5 Kia EV6 MG Marvel

SUMARDEKKJAKÖNNUN 2022


Kjalarnesi

Mosfellsbæ Kirkjustétt Starengi Knarrarvogi Skúlagötu Háaleitisbraut

Bíldshöfða

Skeifunni

Öskjuhlíð

Sprengisandi

BYKO Breidd

Kópavogsbraut

Búðakór Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi)

Kaplakrika

Hafnarfjarðarhöfn

Egilsstöðum Fagradalsbraut 15

Stykkishólmi

Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi

Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO* Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika* Hveragerði Kjalarnesi Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ

Reykjanesbæ - Stapabraut Reykjanesbæ - Hólagata Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Háaleitisbraut Reykjavík - Kirkjustétt Reykjavík - Knarrarvogi Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi* Reykjavík - Starengi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum *afsláttarlaus stöð – okkar langlægsta verð.

ATLANTSOLÍA

FÍB

FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 18 krónu afslátt. Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.


MEIRA FYRIR

FÍB FÉLAGA

HJÁ ATLANTSOLÍU EF DÆLT er 150+ Ltr. á mánuði

1 8 KR

aFSLátTUR

16 Kr


FÍB 90 ára ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson Höfundar efnis: Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Ólafur Hauksson Runólfur Ólafsson Prófarkalestur Snorri G. Bergsson Forsíðumynd Athafnasvæði Eimskips Björn Kristjánsson Umbrot Björn Kristjánsson Auglýsingar Gunnar Bender Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 17.000 FÍB-blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 9.180.Heimilt er að vitna í FÍB-blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimilda getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is

4

FÍB-blaðið

Félag íslenskra bifreiðaeigenda var stofnað 6. maí 1932. Félagið á að baki 90 ára sögu en hefur leitast við að vera nútímalegur og eftirsóknarverður valkostur fyrir notendur heimilisbílsins, vegfarendur og neytendur. Tilgangur FÍB er að sameina bifreiðaeigendur, efla umferðaröryggi, umferðarmenningu og hagsmunagæsla. Félagið er frjálst og óháð einstaklingum, fyrirtækjum, samtökum og stjórnvöldum. FÍB er neytendafélag sem stuðlar að auknum valkostum og frelsi í samgöngum með hagsýni, umhverfisvitund og öryggi vegfarenda að leiðarljósi. Íslenskt vegakerfi er víðfeðmt og um margt frumstætt. FÍB er talsmaður notenda vegakerfisins og hefur þorað að taka afstöðu til forgangsröðunar framkvæmda út frá öryggi og hagsmunum allra landsmanna. Félagið hefur einnig leitt baráttuna gegn nýjum gjaldstofnun á umferðina í formi vegtolla. FÍB var stofnað í miðri kreppunni miklu 1932. Bílar voru ekki almenningseign á þessum tíma heldur tæki sem aðeins þeir efnaðri höfðu ráð á að eignast. Stofnendur félagsins voru framsýnir og sáu fyrir sér það frelsi sem bíllinn veitir til hvers konar athafna: vinnu, ferðalaga og skemmtunar. Fyrstu baráttumálin voru m.a. að lagðir yrðu akfærir vegir um landið og að sómasamlegt vegasamband kæmist á milli allra helstu þéttbýlisstaða og byggða í landinu. Jafnframt var lögð áhersla á að bíleigendur gætu gengið að þjónustu við bílinn sem víðast og að eldsneyti yrði fáanlegt um allt land. Ferðamál, vegamál og umferðaröryggismál voru strax meðal aðalbaráttumála FÍB líkt og er í dag. Bílinn og bættar vegasamgöngur hafa haft mikil áhrif á þær þjóðfélagsbreytingar og efnahagsumbætur sem íslenska þjóðin hefur upplifað á liðinni öld. Bíllinn veitir frelsi til athafna og ferðarlaga en honum fylgir einnig ábyrgð. Bíllinn, sem í árdaga var eingöngu fyrir forréttindahópa hefur síðustu áratugina verið almanna tæki og FÍB stendur vörð um tryggja það. Eign og rekstri fjölskyldubílsins fylgja háar skattaálögur og skaðleg fákeppni er á eldsneytis- og tryggingamarkaði. FÍB vinnur ötullega að því að veita stjórnvöldum, bílgreininni, olíu- og tryggingafélögum aðhald til þess að draga úr óhóflegum kostnaði við rekstur heimilisbílsins. Á þessum tímamótum, þegar FÍB er búið að starfa í 90 ár, verðum við þess áskynja hversu ótrúlegt þrekvirki hefur verið unnið í sögu lands og þjóðar á liðnum áratugum. FÍB hefur komið að mörgum góðum málum á þessum tíma. Félagið hefur alltaf barist fyrir neytendaréttindum, viðskiptafrelsi, heilbrigðri samkeppni og öryggi vegfarenda. FÍB þarf stöðugt að halda vöku sinni í baráttunni fyrir hagsmunum bíleigenda. Félagið tekur virkan þátt í orkuskiptum í samgöngum og framundan eru spennandi tímar varðandi tæknilega þróun ökutækja og samgangna. Runólfur Ólafsson framkvæmdarstjóri FÍB


Nú er einnig hægt að fá FÍB skírteinið í símann!

Nánar á FÍB.is eða


Efnisyfirlit: Neytendavernd bíleigenda er með ólíkindum léleg............................8 Bílaleigubíll Íslendings í Danmörku gerður upptækur......................12 Raf- og tengiltvinnbílum fjölgaði um fimm þúsund á einu ári......14 Bílasala í Evrópu ekki verið lægri um árabil..........................16 Meira er nú um að ungir ökumenn lendi í slysum...........18 Um 20 þúsund manns létu lífið á vegumEvrópusambandsins.....22 Kia efst í áreiðanleika-könnun.22 Subaru með hæstu einkunn....22 Vetrarrafbílarannsókn.............24 Sumardekkjakönnun 2022......26 Reynsluakstur EV6 - Ioniq 5.....40 Reynsluakstur MG Marvel R.....42 NÝIR BÍLAR 2022.......................46

Þörf á skjótari viðbrögðum Veturinn er að baki og nú þarf að horfa fram á veg með sól í hjarta. Veturinn var fyrir margar sakir leiðinlegur og erfiður, ágætur framan af en eftir áramótin gerði áhlaup með ófærð víða og erfitt var af þeim sökum að fara landshluta á milli. Vegakerfið fór úr skorðum og veghaldarar höfðu í nógu að snúast, oft við hættulegar aðstæður, að halda vegum opnum. Umhleypingar í veðri voru meiri en hin síðustu ár, frost og þýða, hafði til að mynda mikil áhrif á holumyndun. Ökumenn fóru ekki varhluta í þessum efnum, dekk skemmdust og í mörgum tilfellum varð tjón á bílum. Hundruð tilkynninga bárust veghöldurum um skemmdir sem bílar höfðu lent í. Þeir fóru í viðgerðir, í sumum tilfellum skjótt og vel en í öðrum ekki. Holur blöstu við ökumönnum í nokkra daga áður en ráðist var í lagfæringar. Þetta er miður en það er vonandi að veghaldarar dragi lærdóm af þessu og bregðist við með skjótari hætti þegar svona áhættuástand skapast. Allir eru að vilja gerðir en betur má ef duga skal. Samgöngumál í aðdraganda kosninga Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hafa samgöngumál verið í brennidepli. Uppbygging og lagning Borgarlínu hafa fengið talsvert pláss í umræðunni. Ljóst er að skiptar skoðanir eru um hana og einnig að borgaryfirvöld verða að hlusta á allar raddir í þessu viðkvæma máli. Allir eru sammála um að löngu er kominn tími til bretta upp ermar og betrumbæta samgöngukerfið á höfuðborgarsvæðinu og Borgarlínan gerir það upp að vissu marki. Mjög skiptar skoðanir eru um veggjöld sem fyrirhugað er að leggja á ökutæki til að mæta fjárþörfinni við uppbygginu Borgarlínunnar. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur komið á framfæri áhyggjum af áformum um nýja skatta á fjölskyldurnar í landinu ofan á þá 80 milljarða króna sem bíleigendur borga nú þegar í formi skatta og gjalda á bíla og umferð. Veggjöld eru aukin skattbyrði og bætast við þær greiðslur sem umferðin skilar nú þegar. Í viðhorfskönnun MMR, Markaðs og miðlarannsóknir ehf, meðal íbúa höfuðborgarsvæðisins um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu sem unnin var fyrir áhugahópinn Samgöngur fyrir alla (ÁS) í fyrrasumar kom fram að 51% svarenda taldi að umbætur á stofnbrautakerfinu væru líklegri til að draga úr umferðartöfum. Hins vegar töldu 33% að Borgarlína væri líklegri til þess. Þátttakendur í könnuninni voru íbúar höfuðborgarsvæðisins 18 ára og eldri og voru þeir valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR (spurningavagn). Úrtakið var vegið eftir aldri, kyni, búsetu og menntun. Rúmlega 600 íbúar höfuðborgarsvæðisins svöruðu könnuninni. Sitt sýnist hverjum í þessu máli og því er afar brýnt að vanda til verks og líta til óska og skoðana þeirra sem fara munu um þetta vegakerfi í nánustu framtíð. Gleðilegt sumar. Jón Kristján Sigurðsson ritstjóri

6

FÍB-blaðið


VIÐ FRAMLENGJUM ÁBYRGÐINA ÞEGAR ÞÚ KEMUR MEÐ BÍLINN Í ÞJÓNUSTUSKOÐUN TOYOTA RELAX

Við framlengjum ábyrgðina á Toyota bílnum þínum um 12 mánuði* í senn þegar þú kemur í þjónustuskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota. Toyota Relax er í boði þar til bíllinn verður 10 ára eða hann ekinn 200.000 kílómetra - hvort sem fyrr kemur. Nánari upplýsingar á www.toyota.is

* Toyota RELAX ábyrgð gildir í 12 mánuði frá og með þjónustuskoðun bifreiðar eða í 15 þúsund km akstur (20 þúsund í tilviki Proace) – hvort sem fyrr kemur.

Íhlutir sem gert er athugasemd við í þjónustuskoðun og sem ekki eru lagaðir falla ekki undir Toyota RELAX ábyrgð. Bíll er gjaldgengur í Toyota RELAX ef hann er fluttur inn af Toyota á Íslandi, er keyrður minna en 200 þúsund km og er ekki orðinn 10 ára gamall. Bílar með minna en 12 mánuði eftir af núgildandi ábyrgð (5 ára eða 7 ára) eru EINNIG gjaldgengir í Toyota RELAX – að öðrum skilyrðum uppfylltum. Fyrirvari við 5 og 7 ára ábyrgð bíla sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi: Ökutækinu skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans og ber eigandi kostnaðinn við slíkt viðhald. Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds.


Neytendavernd bíleigenda er með ólíkindum léleg Bíleigendur eiga fáa vini þegar kemur að opinberum stofnunum sem eiga að gæta hagsmuna neytenda. Það snýr ekki síst að okri á bílatryggingum, en önnur hagsmunamál koma þar skammt á eftir. Fjármálaeftirlit Seðlabankans – verndari tryggingafélaganna Sagan sýnir að fjármálaeftirlit Seðlabankans (FME) passar aðallega upp á að tryggingafélögin hagnist sem mest á kostnað bíleigenda. FME slær aldrei á puttana á tryggingafélögunum fyrir að misnota fákeppnismarkaðinn til að okra á viðskiptavinum. Fjármálaeftirlitið er hluti af Seðlabankanum undir stjórn Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Ekki hefur farið mikið fyrir umræðu af hálfu Ásgeirs um framferði tryggingafélaganna. FÍB hefur margsinnis þrýst á FME að draga úr meðvirkni sinni með tryggingafélögunum. Sjóðir félaganna eru mun bólgnari en þörf krefur til að standa gjaldþoli vegna þess að þau komast upp með að innheimta óeðlilega há iðgjöld. Í lögum um fjármálaeftirlitið eru almenn tilmæli um að FME skuli fylgjast með að starfsemi eftirlitsskyldra aðila „sé að öðru leyti í samræmi við heilbrigða og eðlilega viðskiptahætti“. Iðgjaldaokur tryggingafélaganna samræmist hvorki heilbrigðum né eðlilegum viðskiptaháttum en FME lætur sér fátt um finnast og lyftir ekki litla fingri. FÍB telur að setja þurfi skýr ákvæði um neytendavernd í lög um starfsemi Fjármálaeftirlitsins. FÍB benti Alþingi á það fyrir nokkrum árum án árangurs.

8

FÍB-blaðið

Eftirlit með iðgjöldum var fellt út úr lögum

Eftirlitsstofnun haldin leyndarhyggju

Í eldri lögum um Fjármálaeftirlitið sagði að FME hefði „eftirlit með iðgjaldagrundvelli vátrygginga með það fyrir augum að iðgjöld, sem í boði eru hér á landi, séu í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingum felst og eðlilegan rekstrarkostnað.“ Þegar lögum um stofnunina var breytt 2016 var þetta ákvæði fellt út.

Neytendur og hagsmunasamtök neytenda á borð við FÍB hafa engan aðgang að Fjármálaeftirlitinu né úrræði til að fylgja eftir kærum eða ábendingum. Í verklagsreglum eftirlitsins vegna fyrirspurna og ábendinga segir að þeir sem beina erindum til þess eigi ekki sjálfkrafa rétt á því að ábendingar þeirra verði teknar til meðferðar. Ábendingar og kærur til FME lenda í einskonar svartholi. Sjaldan eða aldrei er hægt að fá upplýsingar um hver tekur við erindindinu, hvaða umfjöllun það fær, forsendur ákvarðanatöku eða lyktir máls. Á sama tíma hafa fjármálafyrirtækin beinan og óheftan aðgang að starfsmönnum og deildum FME.

Þegar bíleigendum ofbýður hækkun iðgjalda langt umfram almennt verðlag, þá ypptir FME bara öxlum og segir að það komi því ekki við. Í september 2021 sendi FÍB fyrirspurn til fjármálaeftirlits Seðlabankans um það hvort stofnunin ætlaði í ljósi hinnar sterku stöðu tryggingafélaganna og lækkandi kostnaðar að senda þeim tilmæli um að halda aftur af iðgjaldahækkunum og/eða lækka iðgjöld. Svarið: Nei, Seðlabankinn hefur ekki eftirlit með iðgjaldagrundvelli vátryggingafélaga og hefur engin slík tilmæli sent þeim.


FÍB-blaðið

9


Samkeppniseftirlitið getur gert betur Lítil sem engin verðsamkeppni ríkir í fáokursumhverfi tryggingafélaganna enda eru bílatryggingar hér á landi þær hæstu á Norðurlöndunum samkvæmt könnun FÍB. Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur ríkar skyldur til að stöðva okur á neytendum í skjóli fáokurs. Hins vegar er ekki hægt að gera verðsamanburð á iðgjöldum tryggingafélaga. Verðlagning þeirra er fullkomlega ógegnsæ. Þau gera aðeins tilboð í tryggingar hvers og eins tryggingataka og eru því illa samanburðarhæf. Þetta er sambærilegt við að verð á matseðli veitingahúsa væri mismunandi eftir því hver sest þar að snæðingi. Forsendur iðgjaldatilboða eru ekki gefnar upp og þar stendur hnífurinn í kúnni. Erfitt er fyrir Samkeppniseftirlitið að sanna ólöglegt athæfi því að það hefur ekkert viðmið.

Að mati FÍB er afar brýnt að efla samkeppni á milli tryggingafélaganna með því að svipta þau leyndarhjúp iðgjaldaútreikninganna. Það stendur upp á Samkeppniseftirlitið að beita sér. Máttlítil sekt Meðan Samkeppniseftirlitið gerir ekkert í þessum efnum er það áfram „stikkfrí“ gagnvart fáokri tryggingafélaganna. Það er helst að stofnunin hreyfi sig við áberandi lögbrot í þessari atvinnugrein. SKE sektaði Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) nýlega um 20 milljónir króna fyrir að tjá sig fyrir hönd tryggingafélaganna um verðlagningu ökutækjatrygginga. FÍB taldi að SKE hefði þar látið tryggingafélögin sleppa létt. Frekar hefði átt að sekta miðað við veltu tryggingafélaganna en veltu SFF. Ógnarlöng málsmeðferð Eitt helsta máttleysi Samkeppniseftirlitsins felst í því hversu málsmeðferð tekur alla jafna langan tíma. Rannsókn samkeppnisyfirvalda á ólögmætu

bílasölu voru felld niður. Fullyrt var að önnur lög um neytendavernd veittu betri tryggingu. FÍB og Bílgreinasambandið vöruðu Alþingi sterklega við afnámi þessara skilyrða. Bent var á hættuna af svikastarfsemi í sölu nýrra og notaðra bíla, líkt og þekkist víða erlendis. Ekki þurfti að bíða lengi eftir afleiðingunum. Nýlega sagði Fréttablaðið frá meintum stórfelldum svikum „bílasölunnar“ Bensínlaus.is. Forráðamenn þessa umboðsfyrirtækis voru horfnir til útlanda með milljóna króna innborganir á bíla sem virðast bara til á pappírunum og viðskiptavinir eru vonlitlir um að endurheimta fjármunina. Akkilesarhæll kærunefndar vöruog þjónustukaupa Nefndin tók við af kærunefnd neytendamála í mars 2020 og afgreiðir hátt í 100 kærur á ári. Ódýrt er að leita til nefndarinnar en málsmeðferð getur tekið drjúgan tíma. Handahófskennd könnun FÍB á meðferðartíma 10 kærumála sýnir að hann er að meðaltali tæpir sjö mánuðir. Nokkuð er um mál sem

Ónotað úrræði Samkeppniseftirlitsins FÍB hefur bent á að Samkeppniseftirlitið hefur víðtækar lagaheimildir til að grípa til ráðstafana til að efla samkeppni. SKE getur skyldað tryggingafélögin til að gera mögulegt að bera iðgjöld milli tryggingafélaga saman. Þannig gætu bæði neytendur og hagsmunasamtök gert samanburðarhæfar verðkannanir og stuðlað að raunverulegri samkeppni. Tæknileg útfærsla getur verið tiltölulega einföld þar sem tryggingafélögin búa nú þegar yfir öllum bakgrunnsbreytum. Eftir sem áður gætu tryggingafélögin bundið endanleg tilboð við einstaklinga eða fyrirtæki líkt og nú. 10

FÍB-blaðið

samráði tryggingafélaga hófst árið 1997 en niðurstaða fékkst ekki fyrr en 2004, sjö árum síðar. Samráð tryggingafélaganna um undirboð drap FÍB-tryggingu sem var komið á fót árið 1995. Fyrir kemur að mál séu til meðferðar hjá samkeppnisyfirvöldum í áratug eða lengur. Niðurstaðan verður oft í þessum dúr: aðgerðin heppnaðist en sjúklingurinn dó. Alþingi opnaði dyrnar fyrir svikahröppum Alþingi breytti lögum um bílasölu 5. mars 2020. Skilyrði um leyfisveitingu og starfsábyrgðartryggingu fyrir

tengjast bílakaupum, bílaleigu og bílaviðgerðum hjá nefndinni og ekki annað að sjá en meðferðin sé vönduð. Akkilesarhæll þessarar úrlausnar er sá að ef seljandi vöru eða þjónustu sættir sig ekki við ákvörðun nefndarinnar verður kaupandinn að fara með málið fyrir dómstóla. Kærunefndin „aðstoðar ekki við fullnustu úrskurða“, segir á vefsíðu hennar. Hún getur sem sagt komist að þeirri niðurstöðu að seljandi eigi að endurgreiða, bæta úr ágöllum eða annað í þeim dúr, en ef seljandinn hunsar þá ákvörðun þá verður kaupandinn að sækja rétt sinn til dómstóla. Svo er þó að sjá að í flestum tilfellum fari seljandinn eftir úrskurðinum.


Vottuð verkstæði TJÓNA- OG ÞJÓNUSTUSKOÐUN BL

Verkstæði BL eru vottuð af framleiðendum og við notum aðeins viðurkennda varahluti, efni og aðferðir. Þannig heldur bíllinn þinn verðgildi sínu betur að lokinni þjónustu eða reglubundnu viðhaldi.

Láttu okkur þjónusta bílinn, við þekkjum hann Við erum sérfræðingar í okkar bílum, hvort sem þig vantar þjónustuskoðun, reglubundið viðhald eða viðgerðir vegna tjóns þá skaltu heyra í okkur. Verkstæðin okkar eru vottuð af framleiðendum og við notum aðeins viðurkenndar aðferðir, varahluti og efni. Þú getur haft samband í gegnum Facebook-síðu BL, tölvupóst eða síma.

N M 0 1 0 3 9 4 B L þ j ó n u s t a 2 0 0 x 2 7 7 F Í B

Eitt fullkomnasta réttinga- og málningarverkstæði landsins

ENNEMM / SÍA /

Ef þú lendir í óhappi erum við til staðar fyrir þig. Réttingaverkstæðið okkar er eina vottaða verkstæði landsins fyrir viðgerðir á BMW, MINI, Jaguar og Land Rover og er unnið eftir ströngum stöðlum framleiðenda til að bifreiðin haldi sömu upprunalegu öryggisatriðum, gæðum og eiginleikum og hann var framleiddur fyrir. Viðgerðir okkar fyrir önnur vörumerki BL eru unnin eftir sömu verkferlum til að fullkomna verkið. Við þekkjum bílinn þinn.

Fyrsta flokks þjónusta við eigendur rafbíla Bifvélavirkjar BL hafa lokið vottunarprófi í þjónustu og viðhaldi á einstökum einingum í bílarafhlöðum og er verkstæði okkar með sérstakt afmarkað rými sem er útbúið öllum nauðsynlegum og sérhæfðum viðgerðar- og greiningarbúnaði sem þarf til þess að annast viðhald á rafhlöðum.

OPNUNARTÍMI

Verkstæði: Mán.–fim. 7:45-18, fös. 7:45-17

Varahlutir: Mán.–fim. 8-18, fös. 8-17

Söludeild nýrra bíla: Mán. 10-18, þri.–fim. 9-18, fös. 9-17, lau. 12-16

BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is

FÍB-blaðið

11


Bílaleigubíll Íslendings í Danmörku gerður upptækur Íslendingur á ferðalagi í Danmörku var tekinn fyrir ofsaakstur (vanvidskørsel) eins og það er orðað. Atvikið átti sér stað á Jótlandi skömmu fyrir síðustu jól en Íslendingurinn var þar í þeim erindagjörðum að heimsækja ættingja. Ökumaðurinn var tekinn á yfir 100 km hraða á klukkustund en deilt er um leyfilegan hraða á þeim stað sem hann var tekinn. Hámarkshraði hafði verið 60 km en hafði verið tekinn niður í 50 km að sögn dönsku lögreglunnar. Íslendingurinn var á bílaleigubíl sem lögregla haldlagði á staðnum í því skyni að gera hann upptækan með dómi – sem myndi gera það að verkum að bílaleigan missti bíllinn. Bílaleigan gerir í framhaldinu þær kröfur að íslenski ökumaðurinn eða leigutakinn greiði bílinn sem metinn er á fjórðu milljón íslenskra króna. Þann 31. mars á síðasta ári tók gildi ný löggjöf í Danmörku þar sem lögreglan getur lagt hald á ökutæki ef það er notað til svonefnds ofsaaksturs. Á tæplega hálfu ári eftir að nýja löggjöfin var tekin upp hafði lögreglan lagt hald á 510 ökutæki á

12

FÍB-blaðið

landsvísu og lagt fram 623 ákærur. Í 586 tilvikum var um ræða hreinan ofsaakstur. Ökumaðurinn íslenski snerist til varnar og leitaði réttar síns með aðstoð Gísla Tryggvasonar landsréttarlögmanns sem bjó lengi í Danmörku og las lögfræði að hluta þar og hefur eftir áratuga norrænt samstarf sinnt fjölda mála undanfarin ár með norræna tengingu og m.a. flutt mál fyrir dönskum dómstólum. Gísli hófst strax handa í málinu fyrir síðustu áramót. Málflutningur um haldlagninguna sem slíka fór fram í lok mars um það hvort handlagning lögreglu á umræddum bílaleigubíl stæðist dönsk lög og mannréttindafordæmi. Í þeirri fyrstu orrustu taldi dómari ekki fært að hafna haldlangingu til að byrja með. „Fyrst úrskurðaði dómstóllinn hvort haldlagningin sem slík stæðist. Síðan mun sakamálið halda áfram því að ökumaðurinn er að mati lögreglu sekur um brot á umferðarlögum, burt sé frá þessari haldlagningu og upptökukröfu sem tekist verður á

Gísli Tryggvason landsréttarlögmaður

um í annarri orustu í aðalmeðferð sakamálsins. Málið stendur og fellur með því hvort hann eigi aðeins að borga einhverja smá sekt, jafnvel missa ökuleyfið í Danmörku um einhvern tíma, eða hvort hann þurfi að borga bílaleigufyrirtækinu á fjórðu milljón íslenskra króna sem nemur andvirði bílsins. Þetta væru því há refsiviðurlög fyrir að keyra hratt,“ segir Gísli Tryggvason landsréttarlögmaður í spjalli við FÍB-blaðið um málið. Þriðja orrustan getur svo snúist um hvort endurkrafa bílaleigufyrirtækisins á hendur ökumanni eða leigutaka stenst reglur neytendamarkaðsréttar enda er erfitt fyrir íslenskan neytanda að átta sig á að hann væri skrifa undir svo afdrifaríkar afleiðingar sem ekki þekkjast í mörgum ríkjum.


Gísli segir að löggjöf í þessum málum hafi verið breytt í Danmörku á síðasta ári. Nú eru því komin ákvæði í dönsk umferðarlög um ofsaakstur. Nokkur skilyrði leyfa að bíll sé haldlagður af lögreglu og gerður upptækur með dómi til að sporna við ofsaakstri, jafnvel þó að eigandinn sé annar en ökumaðurinn. Fjögurra milljón króna refsitengd viðurlög hörð refsing. „Í þessu tilviki stendur reyndar deilan um hvort ökumaðurinn mátti á þessum stað keyra á 50 eða 60 km hraða. Sé það rétt hjá lögreglu að ökumaðurinn hafi þarna bara mátt keyra á 50 km hraða uppfyllir málið skilyrði um ofsahraða eða 100% meira en mátti. Þá má að mati lögreglu gera bíl upptækan en varnir okkar lúta annars vegar að því að það hafi verið óljósar merkingar og hugsanlega nýbúið að keyra framhjá merkingum. Hins vegar er því haldið fram að þetta séu of harkaleg viðurlög við gáleysisbroti eins og hér um ræðir. Loks er byggt á undantekningarheimild í umferðarlögum um að víkja megi frá upptökukröfu við sérstakar aðstæður. Fjögurra milljón króna refsitengd viðurlög væru hörð refsing við gáleysisbroti á umferðarlögum,“ segir Gísli. Gísli var inntur eftir því hvort hafi reynt nú þegar á þessi nýju ákvæði í Danmörku og sagði hann svo sannarlega.

„Já, heldur betur. Ég held núna að málin skipti hundruðum og búið er gera marga bíla upptæka. Að mínu mati var þessu stefnt gegn alvöru ofsaakstri, jafnvel glæpsamlegum ofsaakstri ef svo má segja. Ég held að ferðamaður sem lendir í þessu við svona sérstakar aðstæður eigi ekki að lenda í þessum hörðu viðurlögum. Við erum með fordæmi frá mannréttindadómstólnum sem við teljum að eigi við,“ segir Gísli. Þetta atvik er eigi að síður ökumönnum til umhugsunar og víti til varnaðar, ekki satt? „Jú. Ég held að rétt og í raun mikilvægt sé að segja frá þessu í blaði bíleigenda og koma þessum upplýsingum til fólks sem er að fara að leigja sér bíl í Danmörku. Þessi löggjöf er ný og óvenjuleg á heimsvísu eins og áður hefur komið fram og þá eru útlendingar í landinu betur varaðir við að keyra enn varlegar en áður. Fyrsti úrskurður í málinu lá fyrir seint í mars um að haldlagning lögreglunnar á sínum tíma stæðist. Síðan heldur sakamálið áfram en ákveðið var að láta reyna sérstaklega á haldlagninguna eins og skjólstæðingur Gísla átti rétt á þannig að hann þyrfti ekki að bíða fram í september eftir lyktum. Að ósk Gísla var aðalmeðferð sakamálsins einnig flýtt og fer fram um það leyti sem blaðið fer í prentun.

„Stærsta atriðið í málinu er hvort haldlagning og nú upptaka bílsins stenst eða ekki sem nemur rúmum þremur milljónum króna. Þá er hitt sem eftir stendur eitthvað sem varðar minniháttar sekt eða ökuleyfissviptingu í Danmörku í einhvern tíma,“ segir Gísli. Danir meðvitaðir um þessi nýju lög Gísli segir enn fremur að Danir sjálfir séu orðnir vel meðvitaðir um þessi nýju lög út af fjölda mála sem hafa verið í fréttum þar í landi. Íslendingar eru hins vegar almennt ekki meðvitaðir um það sem Danir kalla ofsaakstur og hvað hann getur leitt til í grófustu tilvikum. Þá kostar mikla orku og peninga að verjast. „Því er brýnt að útlendingar sem ætla að taka sér bílaleigubíl í Danmörku kynni sér eins og kostur er hvaða sérreglur gilda þar í landi og annað eins og reyndar bílaleigufyrirtækið telur sig hafa kynnt fyrir mínum skjólstæðingi,“ segir Gísli en á það getur reynt hér á landi í þriðju orrustu málsins. Reglurnar eru óvenjulegar miðað við Ísland og mörg önnur ríki.

Bjóða lægra verð á ökutækjatryggingum Verna, nýtt íslenskt fjártæknifélag sem hóf starfsemi sína nú í apríl, segist bjóða allt að 40% lægra verð á ökutækjatryggingum en gengur og gerist á íslenskum tryggingamarkaði. Öll þjónusta Verna fer er fram um app sem einfaldlega er hægt að nálgast með því að fara inn á Apple App Store eða Google Play Store og leita að Verna til að ná í appið og byrja að prófa. Fram kemur að með appinu stýra viðskiptavinir verðinu. Appið býr til ökuskor sem leiðbeinir viðskiptavinum um hvernig þeir geta bætt aksturinn og þannig lækkað verðið í hverjum mánuði. Bestu ökumennirnir geta lækkað verð sitt um allt að 40% miðað við markaðsverð en að jafnaði geta viðskiptavinir Verna keyrt verðið niður um 20%. Allir sem eru 18 ára og eldri og eru skráðir eigendur eða meðeigendur bíls geta tryggt bílinn hjá Verna. Afar einfalt er að skipta yfir til Verna. Viðskiptavinir sækja appið, skrá sig í viðskipti og skrifa undir uppsögn á gömlu tryggingunum með rafrænum hætti í Verna-appinu. FÍB-blaðið

13


Raf- og tengiltvinnbílum fjölgaði um fimm þúsund á einu ári Rafbílavæðing landsmanna hefur tekið kipp á síðustu árum samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands en fjöldi rafbíla og tengiltvinnbíla hér á landi fór úr tæpum 12 þúsundum árið 2020 í 17 þúsund ári seinna. Það er til marks um breytinguna að einungis fimm rafbílar voru hér á landi fyrir rúmum áratug. Í ágúst 2021 voru nær 80 prósent þessara bifreiða í eigu heimila. „Ástæðurnar fyrir þessum vinsældum rafbíla eru margþættar,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, og nefnir þar fyrst til sögunnar hertar reglur Evrópusambandsins um útblástursmagn bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti en þær hafi ýtt mjög við bílaframleiðendum. Þetta kemur fram í viðtali við Runólf í nýlegu viðtali í Fréttablaðinu. „Framboð á rafbílum jókst margfalt af þeim sökum,“ segir hann. Með snaraukinni framleiðslu hafi verð á rafbílum líka lækkað. „Loks má nefna að víða, svo sem hér á landi, hafa stjórnvöld boðið kaupendum rafbíla skattaafslætti og þeir hafa virkað mjög hvetjandi,“ segir Runólfur. Hann býst við mikilli fjölgun rafbíla á næstu árum. „Bílaleigur eru byrjaðar að bjóða upp á rafbíla og slíkt er sterk vísbending um það sem koma skal. Og svo er hitt að stórir bílaframleiðendur á borð við Volvo ætla að hætta að framleiða bíla sem nota jarðefnaeldsneyti eftir 2030.“

14

FÍB-blaðið


Nýr

Nánari upplýsingar um 5 ára ábyrgð Honda er á honda.is/5-ara-abyrgd

Láttu heillast

Honda HR-V Hybrid Nýr Honda HR-V tengir saman fágaða hönnun, háþróað hybrid kerfi og akstursupplifun sem hefur aflað Honda aðdáenda um allan heim. Leyfðu HR-V að heilla þig.

Honda HR-V Hybrid Elegance

5.390.000 kr.

Komdu og reynsluaktu nýjum HR-V Hybrid. Við hlökkum til að sjá þig.

Askja · Krókhálsi 11-13, 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Honda á Íslandi.

Umboðsmenn um land allt: K.Steinarsson, Bílasala Austurlands, Bílver, Bílasala Selfoss, Bragginn, Höldur

Fylgdu okkur á Instagram instagram.com/hondaisland

Fylgdu okkur á Facebook

facebook.com/hondaisland FÍB-blaðið 15


Bílasala í Evrópu ekki verið lægri um árabil Þegar rýnt er í sölutölur á bílum í Evrópu fyrir árið 2021 kemur í ljós að salan hefur ekki verið minni frá 1985. Í Evrópusambandslöndunum, auk Bretlands, Noregs og Sviss, voru alls 11,75 milljónir nýskráningar bíla. „Kreppa eftir kreppu hafði neikvæð áhrif á eftirspurn og skráningartölur á bílamarkaðinn. Viðvarandi óvissa í kringum heimsfaraldurinn og mikill skortur á hálfleiðurum skapaði fullkomna óvissu fyrir framleiðendur, segir Felipe Munoz, alþjóðlegur sérfræðingur fyrir Jato Dynamics í London sem tók þessar tölu saman. Hrunið hófst með tveggja stafa lækkun í júlí og í desember 2021. Þá voru aðeins 949.252 bílar skráðir á þessum mörkuðum, sem er 22 prósenta lækkun frá sama mánuði kreppuárið 2020 og heil 25 prósent frá 2019, rétt áður en faraldurinn hófst. Þó að sumir litlir markaðir, þar á meðal Noregur og Ísland, sýndu aukningu á skráningartölum, drógst salan mikið á stórum mörkuðum

– ekki síst í Þýskalandi sem var með lægstu tölur frá 1985 í heildarsölu. Austurríki var með lægstu tölu frá 1984, Belgía frá 1985 og Holland frá 1980. Þrátt fyrir að heildarmarkaðurinn hafi hrunið var betra aðgengi að bílum með öðrum aflrásum en hefðbundnum bensín- og dísilvélum en það veitti Norðmönnum t.d. mikla yfirburði með aðlaðandi ívilnunum fyrir rafbíla og endurhlaðanlega tvinnbíla. Önnur lönd hafa einnig aukið hvata sína fyrir rafbíla á undanförnum árum, sem hefur gert það að verkum að margir Evrópubúar feta nú í fótspor Noregs þegar kemur að því að skipta yfir í rafbíla og endurhlaðanlega tvinnbíla. Árið 2021 voru nýorkubílar 19 prósent af heildarmarkaðnum með 2,25 milljónir skráninga, nánast á pari við dísilbíla sem voru 21,7 prósent. Þegar horft er til bílaframleiðenda jók Hyundai-Kia markaðshlutdeild sína í Evrópu úr 6,7 prósentum árið 2019 í

8,6 prósent árið 2021. Því er að þakka aðlaðandi úrvali rafbíla og jeppa sem eru vinsælir á markaðnum. Toyota jók markaðshlutdeild sína um 1,4 prósent, einkum að þakka Yaris sem var á meðal söluhæstu bíla í nokkrum löndum. Tesla, BMW og Volkswagen náðu einnig að auka markaðshlutdeild sína. Golf náði að verja stöðu sína sem mest selda bílagerð Evrópu með 205.408 skráningar – stöðu sem það hefur gegnt síðan 2008. Spurningin er hversu lengi það varir því að salan á Golf hefur lækkað töluvert frá 2019 og var aðeins 10.000 bílum á undan Peugeot 208 sem var í öðru sæti árið 2021. Markaðshlutdeild Tesla hefur tvöfaldast frá 2019 til 2021, þökk sé fyrst og fremst Model 3 en salan aukist úr 29.300 bílum árið 2018 í tæplega 168.000 á síðasta ári. Model 3 er mest seldi rafbíll Evrópu sem var með 64 prósenta aukningu og fór upp í 17. sæti heildarlistans. Tesla er söluhæst í Noregi og Sviss, númer tvö í Bretlandi og í tíunda sæti í Þýskalandi og Austurríki.


FÍB-blaðið

17


Meira er nú um að ungir ökumenn lendi í slysum Í nýútkominni slysaskýrslu umferðarslysa sem Samgöngustofa tók saman fyrir árið 2021 kemur fram að árið var mjög sérstakt, bæði hvað varðar umferðaröryggi en einnig þjóðfélagið í heild. Þetta var annað árið í röð þar sem heimsfaraldursins gætti en árin 2020 og 2021 eru þó gerólík hvað varðar umferðaröryggi. Um töluverða aukningu slysa og slasaðra er að ræða. Fjöldi slasaðra og látinna í fyrra voru 1162 einstaklingar en árið á undan voru þeir 1015. Árið í fyrra er reyndar undir 10 ára meðaltali frá 2012 til 2021 sem er 1219 og má því segja að til lengri tíma litið sé þróunin í rétta átt. Umferðarslysaskráning Samgöngustofu byggist á lögregluskýrslum sem fengnar eru úr gagnagrunni ríkislögreglustjóra. Skráð eru öll umferðarslys á Íslandi, hvort sem um erlenda eða íslenska ríkisborgara er að ræða. Eftir sem áður eru slys Íslendinga í útlöndum ekki skráð þar.

Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra eykst úr 157 árið 2020 í 208 árið 2021 sem er um 32,5% hækkun. Meira er nú um að ungir ökumenn lendi í slysum en undanfarin ár. Talsverð aukning er í fjölda slasaðra óvarinna vegfarenda og þá sérstaklega á rafhlaupahjólum. Slösuðum börnum fjölgar sem eru gangandi og hjólandi Í skýrslunni kemur fram að minna er um að börn á aldrinum 0–14 ára slasist. Sérstaklega fækkar slösuðum börnum í bifreiðum en hins vegar fjölgar aðeins þeim þeirra sem eru gangandi og hjólandi í þessum aldurshópi. Slysum sem rekja má til vanrækslu á notkun öryggisbelta fækkar og alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar og fíkniefnaaksturs fækkar.

Árið 2021 bætist inn í slysatölfræðina tegund slysa sem þekktust lítillega árið 2020 og ekkert árin þar á undan. Þetta eru slys af völdum rafhlaupahjóla og nema þessi slys 16,8% af heildarfjölda alvarlega slasaðra og látinna í umferðinni 2021. Í viðhorfskönnun sem Samgöngustofa lét gera í fyrra má sjá slaka í viðhorfi fólks til þeirrar ábyrgðar sem felst í notkun öryggisbelta, að aka ekki eftir neyslu áfengis og nota ekki snjalltæki við akstur svo að dæmi séu nefnd. Í raun má segja að slysatölurnar endurspegli að mörgu leyti þetta viðhorf. Í sömu könnun kemur fram að 31,6% fólks (18–24 ára) hafi ekið rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. 42% landsmanna hafa prófað rafhlaupahjól og af þeim notuðu þau 29% undir áhrifum áfengis. Það þýðir að 12,2% af allri þjóðinni (18 ára og eldri) hefur notað rafhlaupahjól undir áhrifum áfengis.


Keyrðu í drullupolla! Við gerum veiðiferðina betri og þrífum fyrir þig jeppann

biladekur.is - Hólmaslóð 12, S: 780-0000

RAFGEYMAR

Eru tækin tilbúin fyrir veturinn? Bíldshöfði 12 • 110 Reykjavík • 577-1515 • NÝTT: Vefverslun á www.skorri.is


Á síðasta ári létust 9 í umferðinni hér á landi Á síðasta ári létust 9 í umferðinni hér á landi og er það einum fleiri en árið á undan og lægra en meðaltal 10 ára sem er 11,9. Athygli vekur hve stórt hlutfall þeirra sem létust árið 2021 voru gangandi eða hjólandi (á reiðhjóli eða rafhlaupahjóli). Fjórir í þeim hópi vegfarenda létust innanbæjar á höfuðborgarsvæðinu en fimm voru í fólksbifreiðum utan þéttbýlis. Í skýrslunni kemur fram að til langs tíma sýna tölur jákvæða þróun hvað varðar fækkun látinna í umferðinni en meðaltal undanfarinna 10 ára er langt undir meðaltali áratuganna á undan. Til samanburðar var létust 16 í umferðinni 2015, 18 árið 2016 og 16 árið 2017. Á árabilinu 1972–1981 létust að meðaltali 26 á hverju ári í umferðarslysum.

Hins vegar á sér stað umtalsverð aukning í samanlögðum fjölda alvarlega slasaðra og látinna árið 2021 og þarf að fara aftur til ársins 2016 til að sjá meiri fjölda. Aukningin nemur 33,6% milli áranna 2020 og 2021. Færri bifhjólamenn slasast í fyrra en tvö ár á undan Í skýrslunni má aftur á móti sjá ánægjulega staðreynd að færri bifhjólamenn slasast í fyrra en tvö ár á undan. Enginn bifhjólamaður lést í umferðinni árið 2021 en 21 slasaðist alvarlega. Árið á undan létust 3 bifhjólamenn og 20 slösuðust alvarlega. Heildarfjöldi slasaðra í fyrra var 41 og þegar litið er til 10 ára meðaltals, sem er 48,5, er þróunin jákvæð en betur má ef duga skal. Hæst náði fjöldi slasaðra bifhjólamanna árið 2008

en þá var fjöldi slasaðra og látinna bifhjólamanna 107 í samanburði við 41 í fyrra. Nokkur ár fyrir 2008 hafði mikill fjöldi fólks keypt sér bifhjól í svo kölluðu góðæri og því var mikið um óvana bifhjólamenn í umferðinni. Fjöldi slysa verður á rafhlaupahjólum Hins vekur athygli sá mikli fjöldi slysa sem verður á rafhlaupahjólum. Mikið er um ölvunarslys á þessum tækjum og verða mörg slysanna um helgar – að kvöldi eða að næturlagi. Skýrslan upplýsir hins vegar að slys á rafhlaupahjólum eru líkt og slys á reiðhjólum að öllum líkindum vanskráð hjá lögreglu og rata þ.a.l. ekki í slysaskýrslu Samgöngustofu. Slysin eru því trúlega mun fleiri en hér má sjá. Ástæðan er að margir ökumenn þessara tækja kalla ekki til lögreglu þegar slys eiga sér stað heldur fara beint á bráðamóttöku eða með öðrum hætti til læknis. Árið 2021 varð í fyrsta skipti banaslys þegar ökumaður á rafhlaupahjóli lést. Fjöldi slysa meðal eldri ökumanna (67 ára og eldri) eykst umtalsvert árið 2021 og hafa aldrei mælst svo mörg. Samtals lentu ökumenn í þessum aldurshópi í 142 slysum, þar af 105 með litlum meiðslum, 35 slys voru alvarleg og tvö banaslys urðu. Ökumenn í þessum aldurshópi eru án efa mun fleiri í dag en áður. Heilsufar og þrek þessa fólks hefur aukist og batnað til muna frá því sem fyrrum

20

FÍB-blaðið


var og þ.a.l. er algengara að þeir séu þátttakendur í umferðinni. Þess má geta að í fyrrnefndri viðhorfskönnun Samgöngustofu kemur fram að viðhorf þessa aldurshóps, hegðun og ábyrgð í umferðinni er mun meiri og betri en annarra aldurshópa. Líkur á heilsubresti er meiri í þessum flokki en annarra og það og fjölgun þeirra í umferðinni kunna að skýra þessa aukningu. Á síðasta ári lentu 167 ungir ökumenn á aldrinum 17–20 ára í slysum en þeir voru 135 árið á undan. Þetta er aukning um u.þ.b. 24% milli ára. Þetta er áhyggjuefni en eftir stöðuga fækkun ungra ökumanna sem lenda í alvarlegum slysum og banaslysum frá árinu 2016 eykst fjöldi þeirra nú mikið. Þeim fjölgar úr 15 í 29 sem er um 93% aukning. Sé horft aftur til ársins 2002 sést þó að töluverð fækkun hefur orðið á slysum meðal ungra ökumanna en meðaltal síðustu 20 ára er 229. Þetta er þó yfir

markmiðum stjórnvalda um fækkun slysa en árin 2017 til og með 2020 var fjöldi þeirra undir markmiðum. Í skýrslunni kemur enn fremur fram að í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir á fjölda látinna miðað við höfðatölu sést að Norðurlöndin eru að standa sig hvað best í Evrópu og væntanlega þar með í heiminum. Ísland er nokkuð á pari við hin

Norðurlöndin en þó í fjórða sæti af fimm. Fæst banaslys miðað við fólksfjölda eru í Noregi. Þar hefur verið gert mikið átak í eftirliti með hraðakstri og til dæmis að á vegum sem eru sambærilegir við íslenska vegi, þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst hafa Norðmenn lækkað hann niður í 70 km/klst.

Smíðum bíllykla Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla Tímapantanir óþarfar

510-8888 – Skemmuvegur 4 - 200 Kópavogi


Um 20 þúsund manns létu lífið á vegum Evrópusambandsins Eins og margir hafa kynnst eru vegir í Evrópu misgóðir og í sumum löndum getur verið hættulegt að aka á þeim eins og tölfræði um slys í Evrópu leiðir í ljós. Um 20 þúsund manns létu lífið á vegum Evrópusambandsins árið 2021 og voru flest banaslys í umferðinni í Rúmeníu. Margir vegir í Austur-Evrópu eru hættulegir til aksturs en í Rúmeníu létust 93 á hverja milljón íbúa og þar á eftir koma Búlgaría, Lettland og Króatía þar sem 72 létust á hverja milljón íbúa. Í tölfræðinni, sem Félag þýskra bifreiðaeigenda, ADAC, sagði frá eru ánægjulegar staðreyndir sem leiddu í ljós að dauðsföll í umferðinni eru færri en nokkru sinni fyrr í Danmörku, Írlandi, Kýpur, Möltu, Litáen, Póllandi, Portúgal og Svíþjóð.

Kia efst í áreiðanleikakönnun J.D. Power Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun bandaríska greiningarfyrirtækisins J.D. Powers yfir bílaframleiðendur. Þetta er áttunda árið í röð að Kia er í efsta sætinu í flokki bíla sem teljast magnsölubílar. Þetta er þó í fyrsta skipti að Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílmerki, ekki einungis magnsöluframleiðendur og því er sannarlega um tímamót að ræða. Í könnun J.D. Powers voru rúmlega 33 þúsund bíleigendur spurðir fjölmargra spurninga á mörgum mismunandi svipuð um áreiðanleika bíla þeirra og bilanir síðustu þrjú ár. Könnunin var framkvæmd í júlí til nóvember á síðasta ári en í þetta skipti var hluta bætt við sem snýst að hugbúnaðarbilunum. Með þessari könnun er J.D Power að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bílaframleiðanda. Könnun J. D. Power fer hér fram í 36. skipti en hún þykir ein virtasta áreiðanleikakönnun í bílageiranum.

Subaru Outback fékk hæstu einkunn Ökuaðstoðarkerfi Subaru Outback fékk hæstu meðaleinkunn (88,8%) og fimm stjörnur fyrir framúrskarandi öryggi og afköst. Þetta kemur fram í mati evrópsku öryggisstofnunarinnar, Euro NCAP, sem er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu. Úttektin á aðstoðarbúnaði fólksbílaframleiðenda fór fram árin 2020 og 2021. Aukningin miðað við árið áður var mest í sumum vinsælum orlofslöndum eins og Slóveníu (43 prósent), Króatíu (23 prósent), Búlgaríu (21 prósent) og Ítalíu (19 prósent). Í stærri löndum eins og Frakklandi og Spáni var aukningin upp á 16 og 10 prósent, í sömu röð. Í Þýskalandi dóu hins vegar færri í umferðarslysum á síðasta ári en nokkru sinni frá því að mælingar hófust fyrir meira en 60 árum. Í heildina urðu 52 prósent banaslysa í umferðinni á vegum í dreifbýli, 40 prósent í þéttbýli og 8 prósent á hraðbrautum. Farþegar í bílum voru 43 prósent allra banaslysa á vegum, gangandi vegfarendur 20 prósent, tvíhjóla (mótorhjóla og bifhjóla) 18 prósent og hjólreiðamanna 10 prósent allra dauðsfalla.

22

FÍB-blaðið

Úttektin var gerð í kjölfar innleiðingar Euro NCAP á nýjum og kröfuharðari öryggisprófunum frá því sem áður var og hefur reynst talsverð áskorun fyrir bílaframleiðendur. Í prófunum Euro NCAP, sem stjórnvöld Evrópuríkja standa að ásamt samtökum neytenda og bifreiðaeigenda, hlaut nýjasta útgáfa Subaru á Eyesight Driver Assist öryggiskerfinu 95% stiga þegar kom að afköstum kerfisins og miklu alhliða öryggi við ólíkar aðstæður. Gæði kerfisins, sem staðfest er af Euro NCAP, endurspeglar vel þá nálgun Subaru sem hefur það að markmiði að eigi síðar en 2030 bíði hvorki nokkur ökumaður né farþegi í Subaru bana í umferðarslysi auk þess er markmið að enginn gangandi eða hjólandi vegfarandi látist af völdum ákeyrslu við Subaru.


Eyjafjörður

Akureyri

734 Víkurskarð 28 km

607

Seyðisfjörður

Reykjavík

Akureyri

Vaðlaheiðargöng 8 km

Öruggari leið í gegnum Vaðlaheiðargöng

464 1790

veggjald@veggjald.is

FÍB-blaðið

23


Vetrarrafbílarannsókn

Félags norskra bifreiðaeigenda, NAF og FÍB Lúxsusbíllinn Mercedes-Benz EQS háði mjög jafna keppni við uppáhaldsbíl almúgans, Tesla Model 3 Long Range, í drægnikeppni 31 rafbíls í Noregi um hver kæmist lengst á rafhleðslunni. Þetta kemur fram í vetrarrafbílarannsókn Félags norskra bifreiðaeigenda (NAF) og félagstímaritisins Motor sem gerð var í byrjun árs. Svo fór að lokum að Teslan hafði sigur og hafði komist 521 kílómetra þegar hún stöðvaðist en Benzinn náði 513 km. Næst kom og BMW iX xDrive50 með 500 km. Allir bílarnir í prófuninni voru langt frá uppgefnum viðmiðunargildum um akstursdrægni (WLTP) framleiðendanna.

Rannsókn þessi var sú viðamestu sinna tegundar í heiminum hingað til og komu fleiri samtök að viðburðinum, þeirra á meðal FÍB. NAF og Motor hafa um árabil gert vandaðar prófanir og úttektir á rafbílum bæði að sumar- og vetrarlagi. Aðstæður í þessari nýju vetrarkönnun voru í stórum dráttum þær að veðurfar og færð var breytilegt, yfirborð veganna var ýmist autt, þurrt, blautt, snævi eða ísi þakið. Hitafar á meðan prófunum stóð var þannig að sjaldan var kallast

Hinn kínverski BYD Tang sem stóð sig þó hlutfallslega best og vantaði aðeins 11 prósent upp á að ná hinum uppgefnu 400 kílómetrum á einni rafhleðslu (hann komst 356 km). Hin nýja Tesla Model Y stóð sig einnig vel og komst 451 km en það er frávik upp á 11,05 prósent. Hér skal undirstrikað að síðustu 100 kílómetrarnir voru brattari upp í móti og hitastigið nokkru lægra en þegar BYD Tang glímdi við lokaleið sína. Í vetrarprófuninni tóku rúmlega þrjátíu bílar þátt.

24

FÍB-blaðið

brunagaddur eða hörkufrost heldur lá lofthitinn oftast á bilinu frá fáeinum plúsgráðum niður í um tíu gráðu frost. Prófanir fóru fram bæði á láglendi og á fjallvegum. Eins og vænta mátti að vetrarlagi náðu rafhlöður bílanna, sem voru 31 talsins, ekki sömu nýtni og afköstum eins og sumar væri og reyndist orkueyðsla þeirra að meðaltali vel yfir 10 prósentum meiri en uppgefin eyðsla samkvæmt WLTP-staðlinum. Nánari úttekt verður á prófununum í 3. tbl FÍB-blaðsins.


ÞVOÐU ÚÐAÐU KEYRÐU AF STAÐ

ELD H T O K S A TVENN Skolið bílinn, blandið ÞVOTTI+VÖRN við vatn og þrífið bílinn með blöndunni. Skolið af, úðið með ÚÐA+VÖRN og skolið aftur. Það þarf ekki meira til. Lakkið hefur nú fengið fallegan gljáa, vatnsfráhrindandi yfirborð og endingargóða vörn gegn óhreinindum. Má nota á gler, plast og lakk. www.sonax.is FÍB-blaðið

25


Fólksbíladekk

Sumardekkjap Motor, félagsblað hins norska systurfélags FÍB, NAF, vann og hafði umsjón með sumardekkjakönnuninni 2022. Eins og undanfarin ár fór sumardekkjaprófunin fram um miðjan október 2021 á Miravel Proving Grounds í Suður-Frakklandi. Þetta prófunarsvæði er í fremstu röð sinnar tegundar hvað gæði snertir og er staðsett rétt fyrir utan borgina Montpellier. Þá viku sem könnunin náði yfir var að mestu sólríkt, hitinn jafnan yfir 20 gráðum á daginn. Öll önnur skilyrði voru hin ákjósanlegustu með fjölda endurtekinna prófana. Þekktir dekkjaframleiðendur raða sér í efstu sætin hvað gæði snertir. Það á ekki að koma á óvart því að sams konar niðurstöður fengust úr könnunum þar á undan. Þó koma

reglulega inn markaðinn ný dekk sem geta allt eins verið álitslegur kostur en þarf þó ekki að vera í öllum tilfellum. Michelin og Goodyear hafa oft verið ofar í könnunum áður en vegnar ekki eins vel að þessu sinni. Continental Premium Contact 6 er sigurvegarinn í sumardekkjakönnuninni í ár og hlaut alls 89 stig. Í umsögn um dekkið kemur fram að það hafi stutta hemlunarvegalengd, mikið grip í beygjum og örugga aksturseiginleika. Nokia Hakka Blue 3 er í öðru sæti með 83 stig. Í umsögn segir að dekkið hafi gott grip á blautum vegum og sé hljóðlátt á grófu malbiki. Bridgestone Turanza T005 hafnaði í þriðja sæti með 81 stig og segir m.a. í umsögn að

Ljósmyndir: FREDRIK DIITS VIKSTRÖM FÍB-blaðið

26

dekkið bregðist vel við ýmsum akstursskilyrðum og veiti gott öryggi. Í næstum sætum þar á eftir koma Toyo Proxes Comfort, Michelin Primacy 4 og Goodyear Efficientgrip. Tyrkneska dekkið Petlas Imperium PT515 skoraði lægst í könnuninni, alls 41 stig. Hemlunargeta dekksins er afar slök og það bregst illa við í krefjandi aðstæðum. Öll próf hefjast og lýkur með dómum á svokölluðum viðmiðunarhjólbörðum til að ganga úr skugga um hvort einhverjar ytri aðstæður hafi áhrif á grip dekksins. Viðmiðunardekkið er einnig notað með öðrum prófunardekkjum þegar þörf er á, til dæmis ef veður- og hitabreytingar verða. Öll dekk eru síðan borin saman við viðmiðunardekkið. Þannig er hægt


prófun 2022 að leiðrétta niðurstöðuna út frá því hvernig yfirborð vegarins verður fyrir áhrifum ytri aðstæðna. Áður en prófin hefjast eru dekkin lítillega slitin eftir hefðbundinni aðferð þannig að þau koma ekki alveg ný frá verksmiðjuframleiðanda í prófin. Golf IV 1.4 TSI bílar með beinskiptingu voru m.a. notaðir í prófunum. Prófað var með ABSbremsum en hálkuvörnin var ekki virkjuð en þannig finna þeir sem koma að prófunum betur fyrir jafnvægi dekksins. Könnunin leggur áherslu á að það getur borgað sig að bera saman verð frá mismunandi birgjum. Dekk geta verið ódýrari ef þú kaupir á netinu en þó ekki alltaf. Hafa verður í huga að flutningur- og annar kostnaður á eftir að bætast ofan á. Bifreiðaeigendur vilja af öllum mætti forðast methátt eldsneytisverð eða endalausa hleðslustöðvun. Dekk með lágt veltiviðnám verða álitlegri en nokkru sinni fyrr og þá sérstaklega fyrir rafbílaeigendur. Í könnuninni kemur í ljós að aukin þróunarvinna hefur bætt hemlunarvegalengd sem er mikið öryggimál. Það vakti athygli hjá þeim sem komu að könnuninni hversu slök dekk frá virtum dekkjaframleiðendum eru sem sérstaklega eru hönnuð með rafbíla í huga. Það undirstrikar hversu mikla vinnu þarf, þolinmæði og gott jafnvægi í dekkjaframleiðslu til hanna gott dekk sem mætir öllum jafnt kröfum um vistvæn dekk án þess að gefa afslátt af öryggiskröfum. Grip þessara dekkja voru engan veginn nægilega góð og komu ekki vel út í prófununum og þá sérstaklega á blautu yfirborði.

Prófanirnar voru framkvæmdar á VW Golf á 205/55 R16 dekkjum

Sífellt harðari umhverfiskröfur eru gerðar frá höfuðstöðvum ESB í Brussel til dekkjaframleiðanda og snúa þær sérstaklega að minna viðnámi og hljóðmengun. Raunin er sú að með auknum kröfum um vistvænni dekk hafa framleiðendur verið að minnka viðnám með því að gera þau stífari. Með stífari dekkjum getur síðan orðið til lengri hemlunarvegalengd og skert grip í krefjandi aðstæðum. Að auki snúa kröfurnar um að hljóðvist verði betri og er því ýmsum aðferðum beitt eins og að breyta mynstri. Athyglisvert er að horfa til þess að burðarþol dekkjanna virðist ekki breytast mikið þótt þau séu markaðsett fyrir rafbíla sem eru að öllu jöfnu umtalsvert þyngri en hefðbundnir eldsneytisbílar. Til að finna eins sambærileg dekk og hægt er meðal vistvænna- og hefðbundinna dekkja var notuð stærðin 205/55 R16 sem er ein mest

selda stærðin í flestum löndum. Dekkjavídd í sumarprófinu passar við margar vinsælar bílategundir og eru notaðar undir vinsæla rafbíla á borð Nissan Leaf, VW e-Golf og Hyundai Ionic svo að einhverjir séu nefndir. Það er mikilvægt að gera sér ljóst að þegar bifreiðaeigendur standa frammi fyrir því hvaða hjólbarðar fara undir bílinn er alls ekki víst að það verði þeir sem komu best út úr könnunni. Í endanlegri ákvörðunartöku þarf að hafa í huga hvaða tegund hjólbarða hentar þörfum hvers og eins. Taka þarf enn fremur tillit til aðstæðna og efnahag hjá hverjum og einum. Það gæti reynst sparnaður að velja ódýrari dekk frekar en úrvalsdekk. Í könnuninni var ekki unnin verðkönnun því að eins og gefur að skilja eru verð oft mismunandi milli söluaðila.

FÍB-blaðið

27


NÝJAR MERKINGAR Á DEKKJUM

Hvað þýða táknin? Frá og með 1. maí 2021 hafa öll ný dekk sem eru seld í Evrópu borið nýjar merkingar. Þar komu aukalega fram upplýsingar varðandi eyðslu, veggný og grip í bleytu. Einnig er kominn QR kóði sem neytandi getur skannað og sótt sér enn ítarlegri upplýsingar varðandi viðkomandi dekk.

Grip við blautar aðstæður. Hemlunarvegalengd mæld frá 80-0 km/h. Einkunn á bilinu A-E og skilja 3 metrar á milli A og B og síðan C o.s.frv. Þannig má áætla að dekk með A einkunn nái að hemla 12 metrum skemur en E flokkur.

Viðnám Hér er viðnám dekkja mælt og gefin einkunn frá A-E þar sem A er lægsta eyðsla. Að öllu jöfnu má miða við að 0,1 lítri á 100 km skilji á milli hvers stafs. Sé þetta heimfært á rafbíla mætti segja að um 15 km sé á milli hvers stafs.

Veggnýr Mæling á veggný sem dekkin gefa frá sér er settar fram með einkunn á bilinu A-C. Þá er einnig tekið fram nákvæm desibil (dB) mæling sem er mæld við akstur fyrir utan bílinn.

28

FÍB-blaðið

Vetrardekk Búið er að bæta merkingar varðandi getu dekks til að aka í vetraraðstæðum. Fjall með snjókorni gefur til kynna að dekkið sé hæft við vetraraðstæður í mildara loftslagi. Fjall með snjótopp þýðir að dekkið sé betur fallið til aksturs við erfiðari vetraraðstæður.


KEYRÐU Á ÖRYGGI! - KAUPTU NOKIAN GÆÐADEKK

Sumardekk frá hinum heimsþekkta finnska dekkjaframleiðanda Nokian fást hjá MAX1 Bílavaktinni. Nokian sumardekkin eru sérstaklega hönnuð til að gefa gott grip við breytilegar aðstæður, m.a. í bleytu. Dekkin hrinda vel frá sér vatni sem vill safnast fyrir í hjólförum vega og draga því úr hættu á að bíllinn fljóti.

SENDUM UM ALLT LAND FLUTNINGUR MEÐ FLYTJANDA 1.000 KR. HVERT DEKK

FINNDU DEKKIN ÞÍN Á MAX1.IS

Nokian Powerproof Dekk fyrir fólksbíla og sportjeppa og henta einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.

Nokian Wetproof

Nokian Outpost AT

Nokian C-Line

Jeppadekk

Sendibíladekk

Dekk fyrir fólksbíla og sportjeppa og henta einnig fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar.

Opnunartími: Virka daga kl. 8-17 og laugardaga sjá MAX1.IS Bíldshöfða 5a 110 Reykjavík | Jafnaseli 6 109 Reykjavík | Dalshrauni 5 220 Hafnarfirði | S. 515 7190

FÍB-blaðið

MAX1.IS

29


Mikilvæg atriði í prófuninni Hemlun Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er þar af leiðandi mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þess vegna er þyngst vægi aksturs og hemlunar í bleytu. Einkunnir hvers hjólbarða eru reiknaðar út frá meðaltali allra mælda hemlunarvegalengda á þurru annars vegar og blautu malbiki hins vegar. Veggrip Veggrip hjólbarðanna er metið með því að mæla brautartíma aksturs eftir votri braut. Akstur og mælingar eru margar og endurteknar af mörgum ökumönnum. Brautin er fjölbreytt og krefst hröðunnar, hemlunar og stýringar um krappar beygjur. Einkunn hvers hjólbarða er reiknuð út frá meðaltali fjölda brautartímamælinga. Aksturstilfinning Ökumenn í könnuninni meta á eigin forsendum hvernig hver hjólbarðategund hegðar sér í almennum akstri á malbiki og ýmsum mismunandi akstursaðstæðum, eins og hvað gerist þegar bílinn skrikar, hvernig gerist það og hversu erfitt eða létt er að ná aftur fullri stjórn á bílnum. Slíkar aðstæður geta komið fyrirvaralaust upp við akstur. Um er að ræða blindpróf, það er að segja að ökumenn vita ekki hvaða hjólbarðategund eru undir bifreiðinni hverju sinni. Flotun Hraðinn er aukinn inn á brautarhluta sem þakinn er vatni. Skráður er sá hraði sem bíllinn hefur náð þegar dekkin byrja að fljóta á vatnsyfirborðinu og veggripið hefur algerlega tapast. Veggnýr Veggnýrinn er bæði mældur með mælitækjum og metinn af ökumönnum. Ekið er eftir vegi með grófu yfirborði. Núningsmótstaða Núningsmótstaða/viðnám hjólbarða er mæld í sérstökum tækjabúnaði á rannsóknarstofu. Niðurstöðurnar eru umreiknaðar út frá því dekki sem mælist með minnstu mótsstöðu (rennur lengst). Niðurstöðurnar eru síðan heimfærðar á eyðslu bíls hvort sem um ræðir eldsneyti eða rafmagn. 30

FÍB-blaðið


Alla leið á öruggari dekkjum Pantaðu tíma í dekkjaskipti á n1.is

Michelin Cross Climate 2

Vefverslun

• Sumardekk fyrir norðlægar slóðir • Öryggi og ending

• Halda eiginleikum sínum vel út líftímann

Skoðað u úrvalið og skráðu þig

Nýtt

• Gott grip við allar aðstæður • Endingarbestu sumardekkin á markaðnum

Michelin e-Primacy

Michelin Pilot Sport 5

• Öryggi og ending

• Sumardekk fyrir þá kröfuhörðustu

• Frábært grip og góð

• Veita óviðjafnanlega aksturseiginleika

vatnslosun • Einstakir aksturseiginleikar • Ferð lengra á hleðslunni / tanknum • Kolefnisjafnaður flutningur frá framleiðanda

• Frábært grip og góð vatnslosun • Endingarbestu dekkin í sínum flokki

Nýtt

Notaðu N1 kortið

440 1000

N1.is

ALLA LEIÐ FÍB-blaðið

31


Sumardekk 1

2

CONTINENTAL PREMIUM CONTACT 6

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

V(240 km/h) 91 (615 kg) 7,4 mm Vika 25, 2021 Tékkland BJB 19.505 kr.

89

STIG

Dekkin eru með bestu niðurstöðu úr hemlunarprófunum ásamt því að hafa gott grip við svigakstur jafnt á þurru sem og blautu malbiki. Dekkin bregðast nákvæmt og hratt við breyttri stefnu. Auðvelt er að halda stjórn jafnvel þegar komið er að þolmörkum við krefjandi aðstæður. Sportlegir eiginleikar dekksins koma fram á kostnað þæginda. Ójöfnur í vegi verða áþreifanlegri ásamt auknum veggný í samanburði við önnur dekk í prófununum en þó ekki svo mikið að valda óþægindum við akstur. Þrátt fyrir nokkra ókosti þá skilar stutt hemlun og góðar niðurstöður í prófunum við svigakstur dekkinu fyrsta sæti að þessu sinni. Kostir: Hemlun, gott grip í beygju, öryggistilfinning

NOKIAN HAKKA BLUE 3

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

V(240 km/h) 94 (670 kg) 7,9 mm Vika 24, 2021 Finnland Max1

83

STIG

Þriðja kynslóð Hakka Blue dekkjanna var ein stærstu tíðindin í þessum prófunum. Í samanburði við fyrri kynslóð hefur náðst aukið jafnvægi milli grips á blautu og þurru undirlagi með auknum stöðugleika, sérstaklega á þurru malbiki. Niðurstöður í hemlunarprófunum eru þær bestu í ár. Dekkið lætur auðveldlega að stjórn og heldur afturenda bílsins stöðugum, jafnvel í kröppum beygjum á miklum hraða. Hins vegar nær dekkið ekki bestu niðurstöðum þegar kemur að floti ásamt því að viðnám er heldur mikið. Veggnýr er í lágmarki á sléttu malbiki og stendur það sig mjög vel eftir því sem yfirborðið verður grófara. Gott grip í svigakstri á blautri braut og aukin stöðugleiki á þurru yfirborði landa dekkinu öðru sæti. Kostir: Grip á blautum vegi, auðkeyrt undir álagi á grófu yfirborði

Ókostir: Þægindi

Ókostir: Eyðsla

Hemlun í bleytu (15)

15

Hemlun í bleytu (15)

15

Grip í blaut beygja (10)

10

Grip í blaut beygja (10)

10

Akstur í bleytu (15)

15

Akstur í bleytu (15)

15

Flot (10)

8

Flot (10)

8

Flot í beygju (10)

8

Flot í beygju (10)

8

Hemlun á þurru (10)

10

Hemlun á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

10

Akstur á þurru (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

4

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

2

Þægindi (5)

3

Samtals (100)

89

Samtals (100)

83

32

FÍB-blaðið


Sumardekk 3

4

BRIDGESTONE TURANZA T005

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(240 km/h) 91 (615 kg) 7,4 mm Vika 19, 2021 Pólland Betra Grip 32.691kr.

81

STIG

Turanza T005 er nær að blanda saman akstursánægju og lágu viðnámi við akstur. Dekkið lætur vel að stjórn og bregst örugglega við óvæntum uppákomum án tilhneigingar til undirstýringar. Á þurru malbiki er bremsuvegalengd stutt og afbragðs stöðugleiki á hærri hraða. Prófanir á blautu yfirborði skiluðu einnig einum bestu niðurstöðum og dekkið stendur sig einstaklega vel í samanburði við prófanir fyrri ára . Neikvæðu niðurstöðurnar snúa að þægindum þar sem óþarflega mikið finnst fyrir ójöfnum á vegi og þegar ekið er á grófu yfirborði berst lágur gnýr inn í farþegarými. Að öðru leyti skila góðir akstureiginleikar öruggu þriðja sæti. Kostir: Lætur vel að stjórn, akstursánægja Ókostir: Ójöfnur í vegi finnast vel, veggnýr

TOYO PROXES COMFORT

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

H(210 km/h) 94 (670 kg) 7,9 mm Vika 4, 2021 Japan Nesdekk 16.991 kr.

79

STIG

Nýja Proxes Comfort dekkið frá japanska framleiðandanum Toyo tekur við af Proxes CF2. Það skipar sér í flokk meðal ódýrari dekkja í þessum prófunum en þó án þess frammistaðan fái að líða fyrir það. Dekkið tekur sér stöðu framarlega í þeim prófunum sem voru lögð fyrir það með góða niðurstöður við hemlun og grip í hröðum beygju. Dekkið er óaðfinnanlegt hvað varðar stöðugleika undir pressu bæði á blautum og þurrum vegi. Hins vegar á það í lítilsháttar basli þegar kemur að snöggum stefnubreytingum á auknum hraða. Hvað varðar veggný eru niðurstöðurnar ágætar á sléttu yfirborði en heldur vaxandi hávaði eftir því sem það verður grófara. Heilt á litið er þetta gott dekk sérstaklega með tilliti til verðs. Kostir: Öruggt í akstri, flot í beygju Ókostir: Eldsneytiseyðsla

Hemlun í bleytu (15)

12

Hemlun í bleytu (15)

12

Grip í blaut beygja (10)

8

Grip í blaut beygja (10)

8

Akstur í bleytu (15)

15

Akstur í bleytu (15)

12

Flot (10)

8

Flot (10)

8

Flot í beygju (10)

10

Flot í beygju (10)

10

Hemlun á þurru (10)

8

Hemlun á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

6

Veggnýr (5)

2

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

2

Þægindi (5)

3

Samtals (100)

81

Samtals (100)

79 FÍB-blaðið

33


Sumardekk 5

6

MICHELIN PRIMACY 4

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

V(240 km/h) 91 (615 kg) 7,5 mm Vika 52, 2020 Pólland N1

GOODYEAR EFFICIENTGRIP P.2

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

76

STIG

V (240 km/h) 91 (615 kg) 8,2 mm Vika 27, 2021 Pólland Klettur 22.990 kr.

75

STIG

Primacy hefur góða og náttúrulega akstureiginleika. Það er stöðugt og fyrirsjáanlegt sem skilar sér í góðri stýringu þrátt fyrir að vera komið út að þolmörkum hvað varðar grip. Í svigakstri helst gripið þrátt fyrir snöggar stefnubreytingar.

Orðið hafa breytingar til hins verra frá síðustu prófunum þar sem dekkið lenti í öðru sæti rétt á eftir sigurvegaranum. Gott grip á blautum vegi en stýring mætti vera nákvæmari. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvar maður hefur bílinn, sérstaklega undir álagi.

Í þessum prófunum er einnig tekin fyrir vistvænni útgáfa af sama dekki þ.e. e.Primacy og vekur athygli að mynsturdýpt Primacy 4 hefur aukist frá fyrra ári og hefur dekkið allra besta þol gegn floti í prófununum.

Á þurru er stýring kvik og eiga dekkin erfitt með að viðhalda stöðugleika við svigakstur og að auki er hemlun eingöngu í meðallagi.

Hins vegar veldur gúmmíblandan í dekkinu slökum niðurstöðum við akstur á blautu yfirborði. Það getur mögulega komið til vegna aukinna áherslna Michelin á endingu. Þá er hljóðvist dekksins ekki sú besta og eykst veggnýr eftir því sem vegur verður grófari. Michelin Primacy lendir í fimmta sæti að þessu sinni.

Þó eru nokkur jákvæð atriði við Efficientgrip P.2 þar sem viðnám er á pari við vistvænu dekkin og í samanburði við þau eru dekkin mun öruggara á vegi. Þau eru þægileg í akstri og veggnýr í lágmarki á grófum vegum. Að þessu leyti er Efficientgrip P.2 góð málamiðlun fyrir þá sem vilja fá jafnvægi milli eyðslu og öryggis.

Kostir: Auðkeyrt, flot

Kostir: Þægindi, flot, akstur á þurru malbiki

Ókostir: Grip í svigakstri í bleyti, veggnýr

Ókostir: Hemlun í bleytu

Hemlun í bleytu (15)

12

Hemlun í bleytu (15)

9

Grip í blaut beygja (10)

8

Grip í blaut beygja (10)

8

Akstur í bleytu (15)

9

Akstur í bleytu (15)

12

Flot (10)

10

Flot (10)

8

Flot í beygju (10)

10

Flot í beygju (10)

8

Hemlun á þurru (10)

8

Hemlun á þurru (10)

6

Akstur á þurru (10)

8

Akstur á þurru (10)

6

Eldsneytiseyðsla (10)

6

Eldsneytiseyðsla (10)

10

Veggnýr (5)

2

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

3

Þægindi (5)

4

Samtals (100)

76

Samtals (100)

75

34

FÍB-blaðið


POWER IS NOTHING WITHOUT CONTROL

Höfuðborgarsvæðið

Fiskislóð 30 Breiðhöfða 13

Skeifan 9 Grjóthálsi 10 Lyngás 8

Akureyri Njarðarbraut 9

Það er stutt í sumarið og líka í Nesdekk!

Njarðarnes 1

Reykjanesbær

Réttu dekkin draga fram bestu eiginleika bílsins og veita hámarks öryggi. Fáðu ráðleggingar fagmanna við val á réttum dekkjum.

Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn og skoðaðu dekkjaúrvalið á nesdekk.is Breiðhöfði 13 110 Reykjavík 590 2080 Tímabókun

Skeifan 9 108 Reykjavík 590 2098 Tímabókun

Fiskislóð 30 101 Reykjavík 561 4110 Tímabókun

Grjóthálsi 10 110 Reykjavík 561 4210 Röð

Lyngási 8 210 Garðabæ 565 8600 Tímabókun

Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333 Tímabókun

Njarðarnesi 1 603 Akureyri 460 4350 Tímabókun

FÍB-blaðið

35

nesdekk.is / 561 4200


Sumardekk 7

8

NOKIAN HAKKA GREEN 3

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

V(240 km/h) 94 (670 kg) 7,9 mm Vika 30, 2021 Finnland Max1

CONTINENTAL ECOCONTACT6

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

60

STIG

V(240 km/h) 91 (615 kg) 6,7 mm Vika 25, 2021 Þýskaland BJB 19.505 kr.

57

STIG

Nýja vistvæna dekkið frá Nokian hefur mun betra grip á blautum vegi en hin vistvænu dekkin í þessum prófunum. Þrátt fyrir að hafa sömu mynsturdýpt og Hakka Blue 3 voru niðurstöður ekki jafn góðar.

Þrátt fyrir að PremiumContact 6 taki efsta sætið í þessum prófunum er vistvæna útgáfan fjarri góðu gamni í orðsins fyllstu merkingu þar sem það stoppar seint og illa á blautum vegi.

Hemlunarvegalengd er löng og er töluvert um undirstýringu á þurrum vegi. Við blautar aðstæður er dekkið ekki að skila afburða niðurstöðum en aksturslega séð gengur það upp.

Hemlunarvegalengd á blautu malbiki er rúmum fjórum metrum lengri en sambærilegt PremiumContact6 dekk miðað við 80 km/h og eykst munurinn enn frekar eftir því sem hraðinn verður meiri.

Dekkið heldur góðu jafnvægi með léttri undirstýringu og er hljóðlátast allra við akstur á grófum vegi.

Mynsturdýpt er fremur lág eða 6,7 mm sem veldur snemmbæru floti. Þegar kemur að akstri í þurru eru niðurstöðurnar ekki betri og getur það verið trekkt til að láta að stjórn. Aftur á móti er það fremur stöðugt eftir því sem að hraðinn eykst.

Að því sögðu er afsláttur af öryggi á kostnað lægri eyðslu ekki réttlætanlegur þar sem önnur öruggari dekk eru jafn sparsöm og ættu frekar að verða fyrir valinu.

Dekkið hefur lægsta viðnám í prófunum og veitir mestu þægindin við akstur en það dugir ekki til að réttlæta kaup á þessu dekki

Kostir: Veggnýr, nothæft grip í bleytu miðað við vistvæn dekk

Kostir: Lág eyðsla, þægindi

Ókostir: Hemlun, slakar eyðslutölur

Ókostir: Grip í bleytu, hemlun, aksturseiginleikar

Hemlun í bleytu (15)

6

Hemlun í bleytu (15)

6

Grip í blaut beygja (10)

6

Grip í blaut beygja (10)

4

Akstur í bleytu (15)

9

Akstur í bleytu (15)

6

Flot (10)

6

Flot (10)

6

Flot í beygju (10)

8

Flot í beygju (10)

6

Hemlun á þurru (10)

4

Hemlun á þurru (10)

6

Akstur á þurru (10)

4

Akstur á þurru (10)

6

Eldsneytiseyðsla (10)

8

Eldsneytiseyðsla (10)

10

Veggnýr (5)

5

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

4

Þægindi (5)

3

Samtals (100)

60

Samtals (100)

57

36

FÍB-blaðið


NÚ ER TÍMINN FYRIR

GÆÐADEKK FÓLSKBÍLADEKK, JEPPADEKK, SENDIBÍLADEKK, FJÓRHJÓLADEKK, LYFTARADEKK

HEILSÁRSDEKK

Terraincontact A/T

SUMARDEKK

CrossContact LX Sport

EcoContact 6

VanContact 200 sendibíladekk

SUMARDEKK

HEILSÁRSDEKK

Grabber GT+

Grabber X3

Grabber HTS 60

Grabber AT3

Altimax Comfort

Grabber ATX

Grabber APT

Grabber AS 365

PremiumContact 6

Ultracontact

UltraSpeed 2

SUMARDEKK

SportContact 7

Comspeed sendibíladekk

HEILSÁRSDEKK

Ultrac Vorti +

Ultrac Vorti R

Ultrac Satin

Quatrac Pro

Comtrac 2 sendibílad.

Sportrac 5

T-Trac 2

Quatrac 5

Hjólbarðaþjónustu fyrir flestar gerðir ökutækja – renndu við eða pantaðu tíma SAMEINUÐ GÆÐI

Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is

FÍB-blaðið

37


Sumardekk 9

10 PETLAS IMPERIUM PT515

MICHELIN E.PRIMACY

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

W(270 km/h) 91 (615 kg) 6,1 mm Vika 11, 2021 Ítalía N1 19.990 kr.

Hraðaþol: Burðarþol: Mynsturdýpt: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

48

STIG

Þetta franska dekk er sagt vera sérlega vistvænt og framleiðslan á því kolefnisjöfnuð. Samkvæmt tölum framleiðanda er skráð viðnám það lægsta meðal allra dekkja í prófununum en raunin var önnur þegar eyðslutölur voru bornar saman milli akstursprófana.

V(240 km/h) 91 (615 kg) 8,1 mm Vika 27, 2021 Tyrkland

41

STIG

Tyrkneska Petlas er eitt ódýrasta dekk sem hægt er að finna á markaðnum. Imperium PT515 er þó EKKI peningana virði. Bremsuvegalengd á 80 km/h á blautu malbiki er heilum 10 metrum lengri en hjá því besta í prófununum.

Í samanburði við Primacy4 hefur þetta dekk örlítið betra viðbragð við stýringu og stöðugleika á auknum hraða. Taka skal til greina að það er framleitt með þyngri bíla í huga.

Svigprófanir sýna fram á hversu erfitt dekkið á með að halda gripi og skortir allt jafnvægi. Á blautu malbiki er það óútreiknanlegt allt frá því að hafa undirstýringu inn í beygjur og að detta í yfirstýringu þegar langt er komið inn í beygju.

Á þurru malbiki er gripið aðeins slakara en Primacy4 en munurinn er umtalsvert meiri þegar kemur að blautum vegi . Slakt grip er í beygjum, fer fljótt á flot og skelfilega löng hemlunarvegalengd.

Ódýr dekk eru því miður oftast undir eldri og ódýrari bílum með minna af öryggisbúnaði. Það er slæm blanda og mikilvægt að spara peninginn í öðru en við dekkjakaup.

Tilraunir til að upphefja vistvæna þáttinn í dekkinu hefur verið tekin allt of langt. Skortur á öryggi er einfaldlega hættulega mikill.

Kostir: Þokkalegt á slæmum vegum Ókostir: Hemlun, lætur illa af stjórn við krefjandi aðstæður

Kostir: Viðnám, stöðugleiki, akstureiginleikar Ókostir: Grip í bleytu, flot, hemlun í bleytu

Hemlun í bleytu (15)

3

Hemlun í bleytu (15)

3

Grip í blaut beygja (10)

4

Grip í blaut beygja (10)

4

Akstur í bleytu (15)

3

Akstur í bleytu (15)

3

Flot (10)

4

Flot (10)

6

Flot í beygju (10)

4

Flot í beygju (10)

6

Hemlun á þurru (10)

8

Hemlun á þurru (10)

4

Akstur á þurru (10)

6

Akstur á þurru (10)

2

Eldsneytiseyðsla (10)

10

Eldsneytiseyðsla (10)

4

Veggnýr (5)

3

Veggnýr (5)

4

Þægindi (5)

3

Þægindi (5)

4

Samtals (100)

48

Samtals (100)

40

38

FÍB-blaðið


er erstjarna stjarnaííbílrúðuNNi? bílrúðuNNi

Við leysum vandaNN þér að kostnaðarlausu Bílrúður - Bílalakk

Stórhöfða 37

bilrudur.is

FÍB-blaðið

39


Reynsluakstur

Kia EV6 Hyundai Ioniq 5 Um mitt ár 2017 bárust þær fréttir að bílaframleiðandinn Hyundai hefði hafið þróun á nýjum undirvagni fyrir alrafmagnaðan bíl. Þótt stutt virðist síðan þá höfðu ekki margir framleiðendur farið af stað í þesskonar hönnun þar sem margir rafbílar voru, og eru enn, byggðir á grunni brunahreyfilsbifreiðar. Úr varð E-GMP (Electric Global Modular Platform) undirvagninn sem er með möguleika á breytilegu

40

FÍB-blaðið

hjólhafi og rafhlöðuuppsetningu fyrir mismunandi tegundir og framleiðendur. Þá er einnig gert ráð fyrir drifi á öllum hjólum. Tæpum fjórum árum síðar fóru fyrstu bílarnir með nýja undirvagninum í framleiðslu. Í raun voru þar á ferð þrír bílar frá þremur framleiðendum, þ.e. Hyundai, Genesis sem er sjálfstætt merki í eigu Hyundai og markaðssett í Bandaríkjunum og síðan Kia sem Hyundai á ráðandi hlut í.

Í Evrópu hefur Hyundai Ioniq5 og Kia EV6 fengið einstaklega góðar móttökur og meðal annars deilt með sér verðlaunum um bíl ársins í fjölmörgum löndum. Því var ákveðið að taka að taka jafnt til prófunar Kia EV6 og Hyundai Ioniq5 og bera saman hvort og hver sé í raun munur á bílum sem deila sama undirvagni en hannaðir og settir saman af sitthvorum framleiðandanum.


Svart og hvítt Bílarnir voru í orðsins fyllstu merkingu svart og hvítt þar sem Kian var svört að bæði innan og utan í GT-útfærslu. Hún fólst aðallega í sportlegra ytra byrði og útlitsbreytingum að innan eins og varðandi sætisáklæði. Þá var bíllinn útbúinn 77kwh rafhlöðu og drifi að aftan Á meðan var Ioniq 5 hvítur bæði að utan og innan í Premiumútfærslu sem meðal annars var með glerþaki og uppfærslu á hreyfanleika í fram- og aftursætum. Útlit Að utan geta bílarnir nánast ekki verið ólíkari en Hyundai tók þá djörfu ákvörðun að sækja innblástur fyrir hönnun í fyrsta bílinn sem þeir settu á markað árið 1975 undir nafninu Hyundai Pony. Ferhyrnd fram og afturljós samsett úr dílum (e. pixel) sem voru alsráðandi þegar PacMan var upp á sitt besta.

Síðan er það EV6 sem er jafn straumlínulagaður eins og Ioniq 5 er ferhyrndur. Einkennandi afturljósin koma í boga nánast frá hjólaskálum að aftan og yfir afturhlerann og mynda eins konar vindkljúf og heyrði undirritaður orðið Batman-bíll oftar en einu sinni á meðan prófunum stóð og er það ekki fjarri lagi, sérstaklega þar sem bíllinn var kolbikasvartur. Báðir voru bílarnir á 20“ felgum er koma sem aukabúnaður á dýrari útgáfu bílanna en grunngerðirnar koma á 19“. Athygli vekur að þrátt fyrir að yfirbyggingin á Ioniq 5 virðist teiknuð með réttskeið er viðnámsstuðull (CD) á milli bílana sá sami eða 0,28. Innra rými Að innan eru báðir bílarnir mjög rúmir sem kemur sérstaklega til vegna þess hve mikið hjólhafið er á nýja E-GMP undirvagninum eða heilir þrír metrar á Ioniq en EV6 var með aðeins skemmra eða 2,9 metra.

Nýr E-GMP undirvagn býður upp á fjölbreytta uppsetningu fyrir mismunandi tegundir yfirbygginga.

Hvíta innréttingin og stóri þakgluggi í Ioniq jók án efa á rýmdarvitund í farþegarýminu. Gott pláss er fyrir ökumann og farþega í framsæti og sama gildir fyrir farþega í aftursætunum sem eru hallanleg. Einnig eru þau á sleða og því er hægt að renna þeim fram til að auka á skottpláss eða ná auknum halla fyrir sætisbakið. Premium-útgáfan er útbúin þægindaframsætum (e. relextion seats) sem er einnig í boði hjá Kia. Í grunninn er hægt, með einum takka, að breyta báðum framsætum í hægindastól með

FÍB-blaðið

41


Innréttingar og mælaborð í KIA EV6 voru dekkri og þéttari í sér en stjórntækin svipuð milli bíla.

skemmli. Við fyrstu sýn er erfitt að sjá í hverju notagildið felst að hafa hægindastól í bílnum en raunin er að kröfur til bættrar hvíldaraðstöðu í bílum hefur aukist í takt við lengri stopp þegar bílar eru í hleðslu og er þetta eflaust ágætur aukabúnaður fyrir þá sem aka lengri vegalengdir og þurfa að stöðva ferð til að hlaða bílinn. Vel loftar um miðjustokkinn í báðum bílunum en skortur var á geymslurými fyrir síma og annað lauslegt öfugt við EV6. Hanskahólfið var skemmtilega útfært sem skúffa fremur hólf og því er notagildið töluvert meira en ella. Afturrúðurnar

eru stærri í bílnum heldur en hjá EV6 og veitir það aukna birtu, betra útsýni og auðveldara er fyrir yngstu farþegana að sjá út. Hjá EV6 breytist andrúmsloftið til muna. Það fyrsta sem undirritaður varð var við þegar sest var undir stýri var hversu lágt var í raun til lofts og þurfti sætið að vera fremur lágstillt. Eitthvað hefur væntanlega tapast af höfuðrými vegna topplúgu sem nær yfir hálft þakið og er opnanleg, öfugt við glerþakið í Ioniq. Augljóst er að innrétting og sæti eru í takt við útlit bílsins en hún er sportlegri með

Hyundai Ioniq 5 var hafði mun léttara yfirbragð og auðveldari stýringu fyrir miðstöð.

42

FÍB-blaðið

þéttara og vandaðra yfirbragði. Með sportlegri hönnun og lægra, aflíðandi þaki opnast pláss af höfuðrými í aftursætum en gólfpláss er mjög gott fyrir alla. Ólíkt Ioniq 5 eru aftursætin frekar lág og getur það mögulega valdið þreytu á lengri ferðum þar sem lærin hafa ekki nægan stuðning. Þegar kemur að geymslurými hefur Hyundai vinninginn með 527 lítra skottpláss gegn 490 lítrum í EV6. Báðir bílarnir hafa einnig geymslupláss að framan undir húddinu en það er á bilinu 20 lítrar í fjórhjóladrifnu útgáfunum og upp í 52 lítrar á þeim afturhjóladrifnu.


KIA EV6 hefur mun sportlegra yfirbragð og spurning hvort útlitið muni eldast betur?

Stjórntæki Eins og í flestum nýrri bílum í dag eru komnir stórir upplýsingaskjáir í stað fyrir hefðbundin mælaborð og eru báðir bílarnir útbúnir tveimur 12,3“ skjáum. Annar er fyrir ökumann og síðan er snertiskjár fyrir miðju mælaborðs sem sér um margmiðlun og aðrar stillingar. Óþarflega langt var í snertiskjáinn og þurfti iðulega að teygja sig fram til að framkalla aðgerðir. Stillingar á miðstöð eru í sjálfstæðri einingu en mikill munur var á milli bílana þar sem stýringarnar í EV6 voru í snertum sem undirritaður var almennt ekki hrifinn af þar sem ekki er hægt að breyta stillingum nema að taka augun af veginum og ekki bætti úr skák að velja þarf virkni á takkaborðinu eftir því hvort maður vilji nýta það til að stjórna margmiðlunarkerfinu eða miðstöðinni. Þannig virkaði takkinn fyrir hljóðstyrk einnig sem hitastýring.

hætti að kveikja á hita í stýri og sætum. Á meðan þarf að fara í gegnum upplýsingaskjá til að virkja hitann í Ioniq 5. Báðir bílarnir voru með svipaðar stýringar í stýri fyrir helstu atriði eins og hljóðstyrk og hraðastilli. Eins minnst var á hér að ofan, EV6 hefur umtalsvert sportlegra yfirbragð og setti undirritaður sig í þær stellingar þegar sest var undir stýri. Sætið var lækkað til að fá lægri aksturstöðu og einnig hversu lágt var til lofts. Þá var stýrið lækkað í góða hæð miðað við sportlegan bíl. Þegar allt var komið á sinn stað kom í ljós að með engu móti var hægt að sjá á allt mælaborðið sem er stór skjár og þarf að rúmast í sjónlínu í gegnum

stýrið. Því þurfti að hækka stýrið aftur sem getur leitt til þreytu í lengri akstri þegar ekið er með báðar hendur á stýri í réttri stöðu (10 í 2). Í Ioniq 5 er skjárinn jafn stór og stýrið svipað en uppsetning bílsins hvetur ökumann til að sitja hátt og því er þetta ekki eins mikið vandamál í þeim bíl þótt skjárinn í þessum bílum og öðrum eru komnir að þolmörkum í stærð ætla framleiðendur að halda áfram að varpa upplýsingum í gegnum stýrið. Akstur Hér var töluverður munur á bílum og kemur sérstaklega til vegna útfærslum. Ioniq 5 kom í Premiumútfærslu sem er sú dýrasta með fjórhjóladrifi og 306 hestafla mótor.

Hyundai-menn fóru aðra leið í þessu máli og gerðu miðstöðina sjálfstæða sem er skömminni skárra þótt svo að hún sé enn stillt með snertum en grunnstýringar fyrir margmiðlunarkerfið voru færðar upp og settar í „alvöru“ takka. Kian hefur hins vegar þann kost umfram Hyundai að hafa bætt við tökkum fremst á miðjustokk þar sem meðal annars er hægt með auðveldum Ferhyrnd fram og afturljós samsett úr dílum (e. pixel) settu sterkann svip á útlit bílsins.


Báðir áttu bílarnir sameiginlegt að hurðarnar opnast vel og gott aðgengi að aftur og framsætum.

EV6 var hins vegar grunnútgáfa með GT-uppfærslu á útliti og innréttingu en mótor 229 hestöfl á afturhjól. Að því sögðu var Hyundai bíllinn mun sprækari með 5,2 sekúndur í hundraðið eða tæpum tveimur sekúndum skemur en EV6. Þó má samt velta upp þeirri spurningu í ljósi þess að hröðun „venjulegra“ bíla er orðin á við bestu ofursportbíla fyrir nokkrum áratugum, hvort við höfum í raun not fyrir þetta í daglegum akstri. EV6 var ágætlega sprækur og kom sér skammlaust áfram. Ekki voru aðstæður til að láta reyna á fjórhjóladrifið, sérstaklega á Ioniq. Þó kemur enn á óvart hversu rásfastir

afturhjóladrifnir rafmagnsbílar eru í raun vegna jafnrar þyngdardreifingar. Því er mikilvægt að kaupendur prófi afturhjóladrifinn rafmagnsbíl með opnum huga og setji til hliðar fyrri reynslu af framþungu eldsneytisbílunum sem voru léttir að aftan og gátu látið illa af stjórn. Báðir bílarnir létu vel af stjórn þrátt fyrir stór dekk sem eru ekki alltaf að vinna með bílum sérstaklega á íslenskum vegum með fræg hjólför og holur. Báðir voru bílarnir á grófum vetrardekkjum og skilaði það sér að einhverju leyti í auknum veggný en þó var hljóðvist bílana mjög fín. Það kemur ekki á óvart að fjöðrunin er ívið stífari í EV6 og veitir það bílnum sportlegri eiginleika við akstur og er hann kvikari í stýri á meðan Hyundai virðist leggja frekari áherslu á mýkt.

Ekki var farið sérstaklega í mælingar á drægni eða eyðslu en EV6 er í boði með tveimur rafhlöðum þ.e. 58 kWh með uppgefna drægni 394 km og síðan 77 kWh með 528 km við bestu aðstæður. Síðan hefur Ioniq 5 einnig tvær stærðir í boði en sú stærri er snöggt um minni en hjá EV6. Þær eru 58kWh með drægni upp að 384 km og síðan 73 kWh með drægni allt að 481 km. Nýi E-GMP undirvagninn keyrir á 800v kerfi og gerir það bílunum kleift að taka við 250kW hraðhleðslu sem er vel af sér vikið og ætti að geta skilað allt 10–80% hleðslu á um 18 mín. Þá er einnig hægt að hlaða bílinn á allt að 11kw á AC sem gagnast vel á minni hleðslustöðvum eins og heima við.

2022 Best of the Best’ Red Dot Design Awards 2022 European Car of the Year 2022 Irish Car of the Year 2022 What Car? Car of the Year 2022 ‘Premium’ winner in the German Car of the Year 2021 ‘Crossover of the Year’ at the TopGear.com 2021 / 2022 Joint winner of the inaugural ‘Best Cars of the Year’

2022 World Car of the Year, World Electric Vehicle of the Year and World Car Design Of The Year from World Car Awards. 2022 New Zealand Car of The Year 2022 German Car Of The Year 2022 ‘Best Import Cars of the Year’ by Auto Bild 2022 No. 1 Electric Car by Autozeitung, highest score among electric cars. 2021 Best Design at the ‘Top Gear Electric Awards. 2021 Car of the Year Mid-size Company, Premium Electric - Auto Express 2021 IDEA Design Award gold prize. Hanskahólfið var orðið að skúffu í Ioniq 5

sem nýtist töluvert betur. FÍB-blaðið 44

Listi yfir áunnin verðlaun hjá EV6 og Ioniq5 fengin að láni frá Wikipedia. Ath. listinn er ekki tæmandi.


Niðurstaða Eftir prófanir kemur ekki óvart að fólk skiptist í fylkingar um hvor bíllinn sé betri, því að þeir hafa upp á fjölmargt að bjóða hver á sinn hátt. Hyundai Ionic yrði fyrir valinu ef undirritaður ætti að velja bíl fyrir fjölskylduna með yngri börn, þar sem hann er bjartari, mýkri og auðveldari í umgengni. Hins vegar yrði Kia EV6 málið ef óskað væri eftir akstursbíl fyrir lengri ferðir með sportlegra yfirbragði og akstureiginleikum. Báðir eru bílarnir með sjö ára ábyrgð og á svipuðu verðbili. Ágætt er að minnast á að KIA mun bráðlega kynna eGT útgáfu af EV6 sem verður heil 585 hestöfl, 740Nm í tog og litlar 3,5 sekúndur í hundraðið. Það eru fjölmörg atriði sem ekki náðist að fara yfir í þessari grein en bílarnir eru ríkulega búnir og þá sérstaklega að því er varðar öryggi og akstursaðstoð sem skilaði bílunum fullu húsi í árekstrarprófunum Euro Ncap. Því er um að gera að kíkja í umboðin og prófa hvor bíllinn henti betur.

Hægt er að leggja sætin niður og slaka á meðan bíllinn er í hleðslu.

Einnig bjóða bílarnir upp á ágæt dráttargetur miðað við rafmagnsbíla en báðir bílarnir geta dregið allt að 1600 kg á hemluðum vagni. Að öllu sögðu eru þetta tveir góðir valkostir og frábær viðbót við ört stækkandi rafbílaflóru hér á landi. Enn er hægt að framleiða söluvænlega bíla með frumlega hönnun og gott notagildi. Björn Kristjánsson

Hyundai Ioniq 5 Premium

Kia EV6 GT-Line RWD

Verð: 5.990.000 kr. - 8.390.000 kr.

Verð: 5.990.777 kr. - 10.290.777 kr.

Afl: 170 - 306 hestöfl

Afl: 170 - 585 hestöfl

Tog: 350 - 605 nm

Tog: 350 - 740 nm

Drægni WLTP: 384 - 481 km

Drægni WLTP: 371 - 528 km

Eyðsla bl. ak: 16,7 - 17,7 kWh/100 km

Eyðsla bl. ak: 16,5 - 17 kWh/100 km

Farangursrými: 527 lítrar / 1587 lítrar

Farangursrými: 520 lítrar / 1300 lítrar

L/B/H: 4.635/1.890/1.605 mm

L/B/H: 4.680/1.880/1.550 mm

Hjólhaf: 3.000 mm

Hjólhaf: 2.900 mm

Eigin þyngd: 1.830 - 2.100 kg

Eigin þyngd: 1.800 - 2.105 kg

Dráttargeta: 750/1600 kg.

Dráttargeta: 750/1600 kg.

Rými, útlit

Aksturseiginleikar, innrétting

Geymslurými fyrir framsæti

Lofthæð, ásýnd á mælaborð FÍB-blaðið

45


MG Marvel R Electric MG Marvel R Electric var kynntur hér á landi í byrjun nóvember 2021. Bíllinn hefur vakið nokkra athygli fyrir marga hluta sakir. Þetta er bíll hlaðinn þægindum og öryggi og verðið á honum kemur á óvart. Bíllinn er fáanlegur í tveimur útfærslum, annars vegar í Luxury 2WD sem gefinn er upp fyrir 400 km drægi og hins vegar Performance 4DW og er gefinn upp með 370 km drægi. MG er nú með höfuðstöðvar sínar í London eftir flutning frá Oxford fyrir nokkru. Fyrirtækið er dótturfélag SAIC Motor UK sem er að hluta til í eigu kínverska ríkisfyrirtækisins SAIC Motor.

46

FÍB-blaðið

MG Marvel R Electric 4WD var reynsluekinn á þungbúnum degi en samt við ágætis aðstæður í marsmánuði. Bíllinn er búinn þremur rafmótorum: einum að framan og tveimur að aftan. Bíllinn er með 288 hestöfl, drægni rafhlöðunnar er um 370 km og snerpan úr kyrrstöðu í 100 km/klst. er 4,9 sekúndur enda telst togið um 665 Nm. Í bílnum er 70 kWh rafhlaða sem unnt er að hlaða úr 5% í 80% á aðeins 43 mínútum. Þá er bíllinn einnig búinn svokölluðu vehicle-to-loadrafkerfi sem leyfir tengingu við annað og ótengt rafkerfi til að hlaða loftdælu, fartölvu eða rafskutlu svo að dæmi sé tekið. Raunar er hægt að hlaða annan rafbíl með orku frá MG Marvel R Electric.

Bíllinn er tæplega 4,7 m langur, rúmir 1,9 m á breidd og 1,7 m á hæð. Hjólhafið er um 2,8 m og farangursrými í skotti er 357 lítrar og alls 1.396 lítrar með niðurfelldum sætisbökum. MG Marvel R Electric 2WD Luxury kostar frá 6.499 milljónum króna og Performance 4WD frá 7.199 milljónum. Í bílnum er notast við stóra rafhlöðuraðeiningu sem eykur bæði rúmmál og þyngd orkuþéttleika og veitir lengri drægni. Allir rafmótarar á MG MARVEL R nota háspennuvafningartækni sem er skilvirkari en hefðbundna aðferðin. Mótorarnir tveir að aftan vinna í sitthvoru lagi til að tryggja hámarks skilvirkni.


Við hönnun bílsins var þess gætt í hvívetna að þróa og bæta við eiginleikum með það að markmiði að tryggja öryggi bæði ökumanna og farþega. Í reynsluakstrinum kom fljótt í ljós hve bíllinn býr yfir góðum krafti og vel um ökumann og farþega. Þá kom á óvart allur búnaður bílsins og er alveg ljóst að kaup á þessum bíl er góð fjárfesting. Verðið er gott miðið við aðra sambærilega bíla á markaði. Eitt vakti athygli hve snertiskjárinn er stór en allt samband við band vandist vel og var öruggt á allan hátt. Skipanir mættu vera sneggri en samt ekki til að setja út á. Það er á margan hátt sérlega notalegt að Bíllinn er vel útbúinn með öllum helstu þægindum keyra bílinn og hann veitir ákveðið öryggi. Evrópska öryggisstofnunin, Euro NCAP sem er sameign bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu, tók bílinn í öryggisprófun um síðustu áramót og gaf honum fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Í Evrópu tala margir um þennan bíl sem flaggskip fyrirtækisins. Hönnun og gerð bílsins hafi heppnast sérlega vel.

FÍB-blaðið

47


Hönnun er bílsins er góð á flestum sviðum en skottpláss mætti vera meira en það rúma eingöngu 357 lítrar.

12,3 tommu snertiskjár er ráðandi fyrir miðju mælaborðs

Bíllinn reyndist þægilegur í borgarakstri og eins reyndist hann ágætlega á malarvegum, mjúkur í flesta staði. Ekki er síður gott að vita að bíllinn býr yfir sérlega góðu Bose 9 hljóðkerfi sem gerir upplifun í akstrinum enn skemmtilegri og virkilega notalega. Fátt er út á bílinn að setja, hann vinnur feikna vel og innrétting hans er vel heppnuð á flestan hátt. Bíllinn er enn fremur hljóðlátur og útsýni úr honum gott. Vert er að benda væntanlegum kaupendum á þá óvenjulegu staðreynd að fjórhjóladrif bílsins virkar eingöngu þegar ekið er áfram en í bakkgír er eingöngu drif á afturdekkjum. MG Marvel er álitslegur kostur í bílakaupum. Rafbíll með gott drægi og miðað við þá kosti sem hann býr yfir er hann á góðu verði. Bíllinn hefur fengið góðar viðtökur í Evrópu og ætti það að vera ákveðin vísbending um hvað í boði er. Jón Kristján Sigurðsson 48

FÍB-blaðið

MG Marvel R Luxury / Performance Grunnverð frá: 6.499.000 / 7.199.000 kr. Afl: 177 / 288 hestöfl Tog: 410 / 665 nm Rafhlaða: 70 kWh. Drægni WLTP: 402 / 370 km Blönduð eyðsla: 19,4 / 20,9 kWh/100 km Farangursrými: 357 lítrar L/B/H: 4.674/1.919/1.618 mm Hjólhaf: 2.804 mm Eigin þyngd: 1920kg Dráttargeta: 750 kg. Gott rými, aksturseiginleikar Viðbragð í snertiskjá


NÝIR BÍLAR

2022

Á vormánuðum 2020 var birt samantekt í FÍB-blaðinu yfir þá bíla sem þá voru væntanlegir á árinu. Þessi samantekt mældist vel fyrir hjá lesendum og ætlum við því að endurtaka leikinn fyrir 2022. Óskað var eftir upplýsingum frá öllum helstu bílaumboðum yfir það hvaða bílar væru væntanlegir á árinu ásamt stuttri lýsingu. Ekki stóð á viðbrögðum og ljóst er að feikna mikill uppgangur er hjá framleiðendum og kemur líklegast ekki óvart að rafmagnsbílar eru hvað fyrirferðamestir. Í einhverjum tilfellum er um uppfærslu að ræða á útliti og eða vélbúnaði en flestir eru ferskir af teikniborðinu.

FÍB-blaðið

49


AUDI Audi e-tron: Bíllinn fær uppfært útlit, stærri rafhlöðu og nýtt nafn Q8 e-tron. Rafhlaðan í e-tron 50 bílnum verður sú sama og er í núverandi e-tron 55 bíl og sá bíll mun fá enn stærri rafhlöðu og lengri drægni. Hvenær: Framleiðsla hefst í lok árs 2022 og koma bílarnir á götuna í byrjun 2023. Verð frá: Væntanlegt. Audi e-tron sportsback: Bíllinn fær uppfært útlit, stærri rafhlöðu og nýtt nafn Q8 e-tron Sportsback. Rafhlaðan í e-tron 50 bílnum verður sú sama og er í núverandi e-tron 55 bíl og sá bíll mun fá enn stærri rafhlöðu og lengri drægni. Hvenær: Framleiðsla hefst í lok árs 2022 og koma bílarnir á götuna í byrjun 2023. Verð: Væntanlegt. Volkswagen Volkswagen ID.5: Nýr ID.5 hefur flæðandi útlínur blæjubíls og nýstárlegt IQ.LIGHT ljósakerfi sem notar Matrix-tækni til að gera þér kleift að aka með háu ljósin á án þess að blinda aðra vegfarendur. Samanborðið við ID.4 er hann með rýmra farangursrými og 12" snertiskjá en aksturseiginleikar og drægni eru á pari við ID.4. ID.5 er með drægni allt að 523 km skv. WLTP ef hann er afturhjóladrifinn ID.5 PRO með 77 kWst rafhlöðu. Hvenær: Apríl 2022 - Verð frá: 6.590.000 kr. Volkswagen Taigo: er fimur sportjeppi (SUV) sem stærðarlega séð er staðsettur mitt á milli T-Cross og T-Roc. Hann bætist því við hóp minni sportjeppa (SUV) frá Volkswagen. Til að byrja með verður hann í boði hvort tveggja beinskiptur og sjálfskiptur með 1.0 TSI 110 hestafla vél. Volkswagen Taigo er sérlega hagkvæmur í rekstri og eyðir að meðaltali 5,4 L/100 samkvæmt WLTP stöðlum. Hvenær: Apríl 2022 - Verð frá: 4.690.000 kr.

Volkswagen ID.Buzz: er bíllinn sem margir hafa beðið eftir í lengri tíma. Rafmagnaður bíll með allri nýjustu tækni sem er innblásinn af gamla góða Rúgbrauðinu. Hann er hlaðinn tæknibúnaði og endurskilgreinir hverju bíll getur áorkað. Breytileg rýmishönnun gerir það að verkum að plássið nýtist einstaklega vel. Til að byrja með verður ID.Buzz aðeins í boði afturhjóladrifinn en árið 2024 munu fjórhjóladrifsbílar koma á markað. ID.Buzz mun koma með 77/82 kWh rafhlöðu og hafa drægi upp á 425 km skv. WLTP. Hvenær: Lok árs 2022 - Verð: Væntanlegt. Skoda Skoda RS Enyaq coupe: er fyrsti RS-rafmagnsbíllinn frá Skoda og aflmesti bíll sem Skoda hefur framleitt hingað til. Coupe RS er fjórhjóladrifinn og knúinn af tveimur rafmótorum sem skila samanlagt 300 hestöflum og 460 Nm togkrafti. Auk sportlegra eiginleika er Enyaq Coupe RS rúmgóður og praktískur líkt og Skoda-bílar eru þekktir fyrir. Hvenær: Júlí 2022 - Verð frá: 7.990.000 kr.

Skoda Enyaq coupe er gæddur öllum helstu kostum hefðbundins Enyaq en er mun sportlegri í útliti. Sportleg lögun Enyaq Coupe dregur úr loftmótstöðu sem skilar sér í aukinni drægni en skerðir skottpláss um örfáa lítra (575 í stað 585 lítra). Hvenær: September 2022 - Verð: Væntanlegt. 50

FÍB-blaðið


Lexus Ný kynslóð af Lexus NX. Með þessari nýju kynslóð kemur NX í fyrsta sinn sem í Plug-InHybrid útfærslu. Verð frá: 10.990.000 kr. Eins og áður fæst hann sem Hybrid-bíll og kostar þannig búinn frá: 9.760.000 kr.

Toyota Aygo X (Cross) Ný kynslóð Aygo X verður kynnt í byrjun sumars. Þetta er sem fyrr minnsti bíllinn frá Toyota en hann leynir skemmtilega á sér og hefur fengið algjörlega nýtt útlit. Verð liggur ekki fyrir.

bZ4x EV Fyrsti rafmagnsbíllinn sem Toyota framleiðir og setur á markað í Evrópu er væntanlegur í sumar. Bíllinn er byggður á arfleið 25 ára rafhlöðutækni Toyota sem hófst með tilkomu Hybrid-bílanna fyrir síðustu aldamót. Drægi bZ4X verður allt að 450 km á einni hleðslu. Verð frá 6.990.000 kr.

Jeep Jeep Grand Cherokee 4xe PHEV: Nýr bíll að utan sem innan. Í fyrsta skipti er Grand Cherokee er boðinn sem plug-inhybrid. Verður með 280 hestafla bensínvél og 100 hestafla rafmagnsmótor. Hátt og lágt drif. Hvenær: Haust 2022. Verð: Væntanlegt. FÍB-blaðið

51


KIA Kia Sportage: Fimmta kynslóð Kia Sportage er nú væntanleg og verður í boði sem tvinnbíll og/eða tengiltvinnbíll með allt að 70 km drægi samkvæmt WLTP og auðvitað öflugu fjórhjóladrifi. Hvenær: Frumsýndur 19. mars Verð frá: 6.990.000 kr.

Kia Niro: Önnur kynslóð þessa vinsæla bíls er nú væntanleg og eins og forverinn verður hann í boði í tvinn-, tengiltvinn- og rafmagnsútfærslum. Rík áhersla hefur verið lögð á hönnun þessa bíls og má segja að vel hafi tekist til. Hvenær: Haust 2022 – forsala hefst í apríl 2022 Verð: Væntanlegt apríl 2022.

Honda Honda HRV: Ný kynslóð þessa vinsæla sportjeppa er nú loksins komin fram á sjónarsviðið. HR-V tengir saman fágaða hönnun, háþróað hybrid-kerfi og akstursupplifun sem hefur heillað Honda aðdáendur um allan heim. Hvenær: Frumsýndur 26. mars Verð frá: 5.390.000 kr. Mercedes Benz EQB frá Mercedes-EQ: Glæsilegur 100% rafdrifinn sportjeppi frá MercedesEQ. EQB er með einstakt innra rými enda með pláss fyrir allt að sjö manns. Magnaður rafbíll sem einnig verður í boði með 4MATIC fjórhjóladrifinu sem tryggir fullkomið öryggi og einstaka akstursupplifun. Hvenær: Kominn Verð frá: 7.490.000 kr. EQE frá Mercedes-EQ: Glæsilegur 100% rafdrifinn fólksbíll frá Mercedes-EQ. EQE byggir á nýjum EVA undirvagni Mercedes-EQ og býður upp á drægi allt að 670 km skv. WLTP. Bíllinn markar endurfæðingu stærri fólksbíla (e. business limousine). Hvenær: Apríl/maí 2022 Verð frá: 9.890.000 kr. EQS SUV frá Mercedes-EQ: Nýtt flaggskip rafjeppalínu Mercedes-EQ. Stór og stæðilegur EQS SUV er 7 manna rafjeppi í fullri stærð sem mun bera höfuð og herðar yfir alla lúxusrafjeppa hingað til. Hvenær: Heimsfrumsýndur vor 2022. Væntanlegur til Íslands í lok árs 2022. Verð: Væntanlegt sumar/haust 2022 Mercedes-Benz GLC SUV: Önnur kynslóð þessa vinsæla sportjeppa er nú væntanleg með fjórðu kynslóð af tengiltvinntækni (plug-in-hybrid) sem skilar bílnum allt að 100 km á rafmagninu einu saman samkvæmt WLTP-staðli. Hvenær: Heimsfrumsýndur vor 2022. Væntanlegur til Íslands í lok árs 2022. Verð: Væntanlegt sumar/haust 2022. 52

FÍB-blaðið


Suzuki Suzuki Vitara. Vitara kemur aftur óbreyttur en með nýrri Strong Hybrid vél, Sjálfskiptur í GL+ og GLX útfærslum. Væntanlegur næsta vor.

Suzuki S-Cross. Nýtt útlit að utan sem innan, kemur sjálfskiptur með 1400 cc Mild Hybrid vél. Kemur síðar með Strong Hybrid vél. Fáanlegur bæði GL+ og GLX útfærslum. Væntanlegur næsta vor.

Porsche Porsche Taycan Sport Turismo: Rafmagnsfjölskyldubíll sem bíður upp á sérstaklega sportlega eiginleika en er samt með stóru skotti og plássi fyrir 5. Allt að 270 kwh hleðslugeta þýðir að bílinn hleðst upp í 80% á um 20 mín. Hvenær: Febrúar 2022 Verð frá: 11.990.000 kr.

Porsche Cayenne Platinum: Margir þekkja Platinum útgáfu Porsche-jeppans enda hefur hún jafnan verið hápunktur hverrar Cayenne-kynslóðar. Með núverandi kynslóð bætist mjög við útbúnað og lúxus bílsins miðað við fyrri gerðir og er sá útbúnaður sem nú fylgir með um 2,7 milljón króna virði. Hvenær: Maí 2022 Verð frá: 16.490.000 kr. SsangYong SsangYong Korando eMotion: Þessi vinsæli jepplingur er loksins kominn í rafmangsútfærslu með 64kwh rafhlöðu. Sérstaða Korando Rafmangs er stærðin þar sem hann er mun breiðari og hærri en aðrir rafbílar í sama verðflokki. Hvenær: Sumar 2022 Verð frá: 4.790.000 kr. FÍB-blaðið

53


Ford Ford Mustang MACH-E GT – 100% rafmagn, 487 hestöfl. Verð frá 10.990.000 kr. Ford E-Transit – 100% rafmagn. Verð: Væntanlegt. Ford Bronco, mögulega væntanlegur á árinu. Ford Ranger (nýr), mögulega væntanlegur á árinu. Volvo Volvo C40 – 100% rafmagn, fyrst fjórhjóladrif, síðar á árinu með framdrifi líka. Verð: Væntanlegt. Volvo XC40 – 100% rafmagn, framdrif (hefur verið í boði með fjórhjóladrifi frá 2021). Verð frá: 6.611.920 kr. Volvo XC60 PHEV – Aukin drægni á rafmagni, 455 hestöfl. Verð frá: 9.170.000 kr. Volvo XC90 PHEV – Aukin drægni á rafmagni, 455 hestöfl. Verð frá: 12.090.000 kr. Volvo XC90 – 100% rafmagn, spurning hvort hann náist á árinu? Verð: Væntanlegt. Polestar Polestar 2 – 100% rafmagn, fyrst fjórhjóladrif, síðar á árinu með framdrifi líka. Verð frá: 6.350.000 kr. Polestar 3 – 100% rafmagn. Mögulega væntanlegur á árinu. Citroën Citroën e-Berlingo forsala hafin. Fyrstu bílar væntanlegir júní. Verð frá: 4.450.000 kr. Nýr Citroën C5 Aircross PHEV – væntanlegur í júní/júlí. Verð frá: 5.970.000 kr.

Peugeot Peugeot e-Partner væntanlegur í júlí. Forsala að hefjast. Verð frá: 4.450.000 kr. Peugeot e-Traveller. Kominn. Verð frá: 7.990.000 kr. 54

FÍB-blaðið

Opel Nýr Opel Grandland Plug in hybrid FWD og AWD. Verð frá: 5.990.000 kr. Opel Combo-e sendibíll væntanlegur í júlí. Forsala að hefjast. Verð frá: 4.550.000 kr.

Mazda Mazda CX-60 PHEV. Verð og nánari upplýsingar væntanlegar í sumar.


BMW BMW i4 - Fyrsti Gran Coupé-rafbíllinn frá BMW með 493-590 km drægni. Hvenær: Mars - Verð frá: 7.990.000 kr. BMW iX3 - BMW iX3 er 100% rafknúinn og með um 461 km drægni. Hvenær: Sumar - Verð frá: 8.990.000 kr.

BMW I4

BMW 2 series Active Tourer - Með nýrri fimmtu kynslóð eDrive-tækni er hægt að aka um 80 kílómetra á rafmagni án útblásturs. Hvenær: Haust - Verð: Væntanlegt BMW iX3

BMW iX1 Fyrsti 100% rafknúni BMW iX1 sameinar nýjungar BMW i og sveigjanleika BMW x. Hvenær: Lok árs - Verð: Væntanlegt

BMW 2

MG MG5 - Þægilegur 100% rafknúinn station bíll með um 400 km drægni Hvenær: 30. apríl Verð frá: 5.190.000 kr. MG5 Dacia Dacia Jogger - Hagkvæmur og áreiðanlegur 7 sæta fjölskyldubíll Hvenær: maí Verð frá: 3.890.000 kr. Dacia Jogger Subaru Subaru Solterra - Fyrsti 100% rafknúinn jeppinn frá Subaru Hvenær: Sumar Verð frá: 6.990.000 kr. Subaru Solterra

Renault Hinn nýi Mégane E-TECH Electric felur í sér rafbyltinguna sem Renault hóf fyrir áratug. Hvenær: Sumar Verð frá: 5.390.000 kr.

Renault Megane e-tech

Renault Austral - Austral mun koma með nýja E-TECH Full Hybrid vél. Hvenær: Lok árs Verð: Væntanlegt Nissan Nissan Ariya - 100% rafknúinn jeppi frá Nissan með allt að 500 km drægni Hvenær: Sumar Verð: Væntanlegt Nissan Arlya

Renault Austral


Hreyfðu við heiminum.

IONIQ 5

ENNEMM / SÍA /

NM010391 Hyundai IONIQ 5 200x277 FÍB

Fjórhjóladrifinn, 100% rafmagn.

Hvað finnst þér mikilvægast í heimi? Markmiðin, fjölskyldan, starfið? Hvert sem þú stefnir þá hefur IONIQ 5 kraftinn til að hjálpa þér að ná takmarkinu. Þú dregur 481 km. Ofurhleðslan bætir 100 km við á aðeins 5 mínútum. Eltu draumana þína örugglega hvert sem er með 2. stigs akstursaðstoð. IONIQ 5 getur allt þetta og miklu meira.

www.hyundai.is

Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Hyundai býður eina víðtækustu ábyrgð sem til er. Ábyrgð á öllum nýjum Hyundai bílum er sjö ár/150.000 km akstur, hvort sem kemur á undan. Átta ár/160.000 km ábyrgð er á rafhlöðum. Staðbundnir skilmálar gilda. Kynntu þér allt um ábyrgðina á hyundai.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
FÍB Blaðið 1. tbl. 2022 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu