Skip to main content

FÍB Blaðið 3 tbl. 2018

Page 1

3.tbl. 2018

F É É L L A A G G F

Í S S L L E E N N S S K K R R A A Í

B I I F F R R E E I I Ð Ð A A E E I I G G E E N N D D A A B

HVAÐ KOSTA

þjónustuskoðanir

REYNSLUAKSTUR Nissan Leaf KIA Stinger Range Rover Velar

VETRAR DEKKJA

könnun fíb 1


Mosfellsbæ

Skúlagötu

Skeifunni

Öskjuhlíð

Bíldshöfða Sprengisandi

Kópavogsbraut

BYKO Breidd

Búðakór

Akureyri (Glerártorgi og Baldursnesi) Kaplakrika

Birgðastöð Hafnarfjarðarhöfn

Egilsstöðum Fagradalsbraut 15

Stykkishólmi

Borgarnesi Mosfellsbæ Reykjavík Reykjanesbæ Hveragerði Selfossi

VELDU ÞÍNA STÖÐ! Akureyri - Glerártorgi Akureyri - Baldursnesi hjá BYKO Borgarnesi Hafnarfirði - Hafnarfjarðarhöfn Hafnarfirði - Kaplakrika Hveragerði Kópavogi - Búðakór Kópavogi - Kópavogsbraut Kópavogi - Byko Breiddinni Mosfellsbæ

ATLANTSOLÍA

Reykjanesbæ - Njarðvík Reykjavík - Bíldshöfða Reykjavík - Skeifunni Reykjavík - Skúlagötu Reykjavík - Sprengisandi Reykjavík - Öskjuhlíð Selfossi Stykkishólmi Egilsstöðum - Fagradalsbr.15

FÍB

FÍB félagar eru í uppáhaldi hjá okkur og fá sérlega góð kjör með dælulyklinum, eða allt að 15 krónu afslátt á valinni Atlantsolíustöð.

2

Sæktu um lykil á www.fib.is og byrjaðu að spara.


MEIRA FYRIR

FÍB FÉLAGA

HJÁ ATLANTSOLÍU 15 kr

afsláttur

EF KEYPT ER 150 L EÐA MEIRA

EF KEYPT ER 150 L EÐA MINNA

12+3 KR 10+3 KR

3


4


Um 80 milljarðar króna í bílaskatta

S ÚTGEFANDI: FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA

Ritstjóri Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson HÖFUNDAR EFNIS: Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Róbert Már Runólfsson Runólfur Ólafsson Stefán Ásgrímsson Eiríkur Hreinn Helgason Prófarkarlestur: Snorri G. Bergsson Ljósmyndir: Björn Kristjánsson Jón Kristján Sigurðsson Róbert Már Runólfsson UMBROT/AUGLÝSINGAR Björn Kristjánsson bjorn@fib.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 18.000 FÍB Blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 7.890.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA

Skúlagata 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Fax: 414-9998 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is

kattar á bíla og umferð eru hátt í 80 milljarðar króna árlega. Miðað við fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2019 má áætla að skatttekjur ríkisjóðs af eldsneyti fyrir utan virðisaukaskatt verði um 29,4 milljarðar króna, kílómetragjald af ökutækjum á að gefa af sér 1,2 milljarða króna og bifreiðagjaldið á að skila 7,7 milljörðum í ríkissjóð. Til viðbótar eru ýmis önnur gjöld og skattar sem tengjast notkun ökutækja, s.s. umferðaröryggis-, vanrækslu- og skráningargjald sem aflar ríkissjóði árlega um 2 milljarða króna. Tekjur ríkissjóðs af notkun ökutækja fyrir utan virðisaukaskatt verða því um 40 milljarðar króna árið 2019. Allt of lítið hlutfall skatta af bílum rennur til vegamála. Í tillögum stjórnvalda um fimm ára samgönguáætlun er gert ráð fyrir að til framkvæmda á vegakerfinu 2019 verði varið ríflega 23,5 milljörðum króna og að framlög til þjónustu vega verði ríflega 5,5 milljarðar króna. Þarna er verið að auka við fjárframlög til vega miðað við síðustu ár en gert er ráð fyrir að lækka framlögin um hátt í 6 milljarða króna þegar árið 2022. Við þessar aðstæður er það einkennilegt að stjórnmálamenn boði nýja bílaskatta í formi vegtolla þvert á vilja meirihluta þjóðarinnar. Farsinn um göngin að Bakka Á sínum tíma ákvað ríkisstjórn Íslands að grafa göng undir Húsavíkurhöfða milli hafnarinnar við Húsavík og iðnaðarsvæðisins á Bakka. PCC Kísilverið á Bakka mun þurfa að brenna 66 þúsund tonnum af kolum árlega við framleiðsluna. Á tímum vaxandi vitundar um alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga var samþykkt af ríkisstjórn og meirihluta Alþingis að verja fjórum milljörðum króna af vegafé sem innheimt var með bílasköttum til að styrkja uppbyggingu á mengandi stóriðju. Í upphafi var gert ráð fyrir að kostnaður við framkvæmdina að Bakka yrði 1,8 milljarðar króna. Endanlegur kostnaður var um 4 milljarðar króna. Allur viðbótarkostnaðurinn rann létt í gegnum fjár-

veitingavaldið og engin var gerður ábyrgur vegna þessarar misnotkunar á almannafé og framúrkeyrslu á framkvæmdatímanum. Undanfarið hefur verið deilt um hver beri kostnaðinn af umsjón og rekstri Húsavíkurhöfðaganga og vegarins út á Bakka. Vegagerðin ætlar að hætta afskiptum af göngunum 1. nóvember n.k. og heldur því fram að henni sé óheimilt að þjónusta göngin enda almenn umferð um veginn bönnuð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, telur sjálfgefið að Vegagerðin eigi að fara með veghaldið og bera kostnaðinn í samræmi við lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Rekstrarkostnaður jarðganganna við Bakka falli undir kostnað við samgöngumál í fjárlögum. Þórdís Kolbrún hefur talað fyrir nýjum sköttum á bíleigendur, þ.e. vegtollum. Sveitarfélagið Norðurþing ætlar ekki að taka reksturinn að sér og segir það hlutverk ríkisins. PCC á Bakka ætlar að annast göngin tímabundið en segist senda þann reikning á opinbera aðila. Í frétt RÚV um málið segir að sveitarfélagið vísi á ríkið, ríkið vísi á Vegagerðina og Vegagerðin neiti ábyrgð. Það fóru 4 milljarðar króna í sértæka vegagerð undir Húsavíkurhöfða til styrktar stóriðju. Vegurinn er lokaður til afnota fyrir aðra vegfarendur en þá sem eiga erindi til eða frá PCC kísilverksmiðjunni. Vegfarendur um land allt borguðu framkvæmdina en mega ekki nota ,,eigin“ veg. Þetta var og er undarleg opinber framkvæmd sem þjónar á engan hátt almennum vegfarendum. Fáránlegt er að krefjast þess til viðbótar að rekstur þessa lokaða stóriðjuvegs sé á kostnað vegfarenda.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri 5


Gjaldtaka aflögð og hvað svo?

S

ögulegur áfangi varð í samgöngumálum þjóðarinnar í lok september þegar eignarhald á Hvalfjarðargöngum færðist frá Speli til ríkisins. Samningar þar að lútandi voru undirritaðir og rekstur ganganna er í höndum ríkisins sem sér nú um alla þjónustu, viðhald og öryggi í göngunum. Vegagerðin mun annast viðhaldið, að minnsta kosti fram að áramótum. Skiptar skoðanir voru um nytsemi ganganna þegar ákveðið var að ráðast í byggingu þeirra en þegar allt er á botninn hvolft geta flestir verið sammála um að göngin voru hin besta samgöngubót. Þau hafa skilað hlutverki sínu og munu gera það áfram um ókomin ár. Með breytingum á eignarhaldi lagðist gjaldtaka af í göngunum en það er í samræmi við ákvæði sem samið var um áður en framkvæmdir hófust fyrir tveimur áratugum. Sögur hafa verið á kreiki um að ríkið útiloki ekki að taka upp gjaldtöku í einhverri mynd að nýju en enginn ákvörðun liggur fyrir enn sem komið er í þeim efnum. Skattakrumlur stjórnvalda láta ekki á sér kræla, það þekkja landsmenn í gegnum tíðina, og þá sérstaklega þegar bíllinn á hlut. Þangað til annað verður ákveðið njóta landsmenn þess nú um stundir að keyra frítt í gegnum göngin. Vonandi verður það áfram. Áður en göngin urðu eign ríkisins var umræða um tvöföldun Hvalfjarðarganga komin af stað. Raunar hafa verið skoðaðar alls fimm mismunandi leiðir í þeim efnum. Fumvinna er í gangi en öllum má þó vera ljóst að fyrr en síðar þarf að fara í aðgerðir til að mæta aukningu umferðar í göngunum og bæta öryggið.

Vegtollar Umræða um vegtolla skýtur af og til upp kollinum. Stjórnvöld líta hýru auga til þessarar skattheimtu til að fjármagna og flýta fyrir uppbyggingu í vegakerfinu, eins og það er orðað. FÍB stóð fyrir könnun um gjaldheimtu sem þessari fyrir nokkrum árum og hún leiddi í ljós að yfirgnæfandi hópur fólks setur sig á móti vegtollum. Hér er á ferð eldheitt mál sem aldrei verður einhugur um. Fyrir alþingskosningarnar í fyrra lagði FÍB spurningar fyrir flokkana, sem þá voru í kjöri, sem lutu að samgöngumálum. Framsóknarflokkurinn sem fer með samgöngumál í núverandi ríkistjórn lýsti sig ekki hlynntan vegatollum, þeir væru „viðbótarskattur sem leggst þyngst á þá sem sækja vinnu daglega til höfuðborgarsvæðisins.“ Í þessu sem öðru þegar loforð fyrir kosningar eru annars vegar verða þau orðin tóm þegar á reynir.

8 Tvöföldun Hvalfjarðarganga

Skattheimtur á bifreiðaeigendur eru nægar fyrir þannig að vegtollar myndu enn frekar þyngja rekstur bílsins. Stjórnvöld hafa svifist einskis í gjaldtöku þegar bíllinn er annars vegar. Á endanum er alltaf seilst ofan í vasa bíleigenda. Nú er komið nóg í þeim efnum. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur á liðnum árum ítrekað mótmælt hugmyndum um nýja bílaskatta í formi vegtolla.

21 Bílasala í Evrópu tók mikinn kipp

8 Fjöldi ferðamanna á vegum landsins 9 70% ökumanna nota síma undir stýri 10 Samgönguöryggi ógnað 12 Viðtal við nýjan framkv.stj. BGS 13 Rangt eldsneyti á breska lögreglubíla 13 Rafbílar í Noregi renna út 14 Hyundai merki ársins 14 100 milljarða sekt Audi 15 Umhverfisverðlaun Toyota 16 Gera ráð fyrir hleðslu rafbíla 16 Hyundai og Audi þróa vetnistækni 17 Ný nagladekk frá Michelin 18 Daimler með fleiri atvinnurafbíla 18 ESB rannsaka þrjá bílaframleiðendur 19 Framleiðslu VW Bjöllu hætt 20 Tekið tillit til ábendinga BGS 21 Borgarlína í framkvæmd 2020 22 Breytt landslag í götulýsingu 23 Hvað kostar þjónustuskoðun 24 Porsche Roadshow 2018 26 Vegagerðin tekur við göngum 26 Hækkun á bílasköttum 27 Bíll ársins 28 Vetrardekkjakönnun 36 Reynsluakstur Nissan Leaf 39 Reynsluakstur Kia Stinger 42 Viðtal við Sigurð hjá Ísorku 44 Reynsluakstur Range Rover Velar 46 Kynningarakstur Jaguar I-Pace 47 Allt um olíu og olíuskipti

Jón Kristján Sigurðsson Ritstjóri 6

Efnisyfirlit

48 Endurmenntun atvinnubílstjóra


facebook.com/enneinn ENNEMM / SÍA / NM84026

www.n1.is

Keyrðu á örygginu í vetur Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is

Michelin X-ICE

Við viljum hafa pláss fyrir allt

Hljóðlát, naglalaus vetrardekk Lífið grip tekurí breytingum með tímanum. Börnin Ný APS gúmmíblanda tryggir gott kulda

Frábærir aksturseiginleikar

stækka, þeim fjölgar, áhugamálin breytast, ferðalögin lengjast. Það sem ekki breytist er að við þurfum pláss fyrir alla og allt sem þeim fylgir. Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun bilið í bílakaupunum.

Kynntu þér kjörin Michelin X-ICE NORTH 4 og ólíkar leiðir á arionbanki.is

Besta hemlun á ís, hvort sem dekkin eru ný eða ekin 10.000 km Betri aksturseiginleikar m.v. helstu samkeppnisaðila Hámarks grip með sérhönnuðu mynstri fyrir hverja stærð Einstök ending

Michelin Alpin 6 Nýr mynsturskurður sem opnast eftir því sem dekkið slitnar Heldur eiginleikum sínum út líftímann Lagskipt gúmmíblanda sem veitir hámarks grip

Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu

4401318 440-1322 440-1326 440-1320

Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi Réttarhvammi Akureyri

440-1378 440-1374 440-1372 440-1394 440-1433

Opið mán – fös laugardaga www.n1.is

kl. 08-18 kl. 09-13

Alltaf til staðar

7

H VÍ TA HÚSI Ð / SÍ A

Öruggt frá fyrsta til síðasta kílómetra

Notaðu N1 kortið


FRÉTTIR

Tvöföldun Hvalfjarðarganga

M

annvit og Vegagerðin hafa skoðað mismunandi leiðir til að tvöfalda Hvalfjarðargöng, alls fimm mismunandi leiðir. Engin ákvörðun hefur verið tekin um tvöföldun en jafnan vinnur Vegagerðin svokallaða frumdragavinnu til að skoða möguleika og kosti þannig að unnt sé að taka frekari ákvarðanir byggðar á raunverulegum kostum. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar í umfjöllun um málið. Tilgangur þessa verkefnis nú er að skoða hvaða möguleikar eru raunhæfir við tvöföldun gangnanna og hvernig þeir uppfylla reglur og

markmið, slysatíðni og hagkvæmni. Ekki er reynt að svara því hvenær tvöfalda þurfi göngin. Áætlaður slysakostnaður fyrir gangaleiðirnar fimm er á bilinu 200 til 235 milljóna kr. á ári miðað við 15.000 bíla á sólarhring að jafnaði allt árið (ÁDU). Sé ekkert gert til að bæta öryggi umferðar eða skipta umferð í tvenn göng er áætlað að slysakostnaður í núverandi göngum verði um 490 milljónir kr. á ári miðað við 15.000 ÁDU eða meira en tvöfalt hærri. Ljóst er því að fyrr en seinna þarf að ráðast í aðgerðir til að bæta öryggi vegfaranda um Hvalfjarðargöng.

Göngin eru samtals 5770 metrar að lengd og þar af liggja 3750 metrar undir sjó. Göngin eru að mestu tvíbreið en þrjár akreinar í hallanum norðan megin. Dýpst fara göngin 165 metra undir yfirborð sjávar og eru grafin djúpt í berggrunninn undir sjávarbotninum. Árið 2017 fóru hátt í sjö þúsund bílar um göngin á sólarhring en göngin voru upprunalega hönnuð fyrir aðeins fimm þúsund bíla á sólarhring Enn sem komið er hefur engin ákvörðun verið tekin um hvenær ráðist verður í þessa afar brýnu framkvæmd.

30–40 þúsund ferðamenn fara um vegakerfið daglega

U

mferð á þjóðvegum landsins hefur aukist um tæplega 40% á síðustu fimm árum. Á milli 30–40 þúsund ferðamenn fara um vegakerfið á hverjum degi og því fylgja miklar áskoranir. Þetta kom m.a. fram í máli Sigurður Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á Umferðarþingi sem haldið var á Grand Hóteli í Reykjavík. Þar kom fram að umferðarslys og óhöpp kosta um 50 milljarða á ári og markmiðið sé að draga úr slysum með öllum tiltækum ráðum. Á þinginu var lögð áhersla á umferðaröryggi 8

á Íslandi, sérstaklega með tilliti til vaxandi fjölda erlendra ferðamanna. Umferðarslysaskráning Samgöngustofu er byggð á skýrslum úr gagnagrunni Ríkislögreglustjóra. Þar má finna ítarlegar upplýsingar sem notaðar eru til greiningar á umferðaröryggismálum á Íslandi. Í fyrra jókst umferð um landið talsvert og hefur það leitt til aukins álags og verkefna hjá lögreglu um land allt. Samhliða hefur fjöldi bílaleigubíla aukist og rútuferðum fjölgað. Á þinginu var enn fremur rætt um hvernig nota megi nýjustu tækni og

stafrænar lausnir til að leiða ökumenn á öruggan hátt um landið okkar, hvernig hægt sé að koma upplýsingum um vegakerfið, færð og veður til ökumanna á árangursríkan hátt.


Um 70% ökumanna nota síma ólöglega undir stýri

N

otkun snjallsíma undir stýri er sláandi algeng samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var fyrir Sjóvá. Samkvæmt henni nota tæplega 70% ökumanna síma ólöglega undir stýri. Þetta eru slæmar niðurstöður og er ljóst að umferðaröryggi er ógnað með þessari þróun.

Annað áhugavert sem kom fram var að allir þátttakendur svöruðu að símnotkun undir stýri væri hættuleg og hefði mikil áhrif á aksturshæfni. Þó virðist fólk að litlu leyti hegða sér í samræmi við þá vitneskju. Hækkun

á sektum virðist ekki enn hafa áhrif á þessa hegðun. Meirihlutinn í rannsókninni vissi að búið væri að hækka sektir úr 5.000 kr. í 40.000 kr. en það virðist ekki draga úr notkuninni.

Niðurstöðurnar leiddu í ljós að töluvert meiri notkun er hjá yngri aldurshópum og mikill munur á aldurshópnum 18-44 ára miðað við 45 ára og eldri. Í yngri aldurshópnum nota níu af hverjum tíu ökumönnum síma ólöglega undir stýri. Tveir þriðju ökumanna lesa eða senda skilaboð við akstur og sama hlutfall talar í símann án handfrjáls búnaðar. Sé tekið heildarhlutfall allra ökumanna lækkar hlutfallið lítillega eða í sjö af hverjum tíu ökumönnum sem nota símann ólöglega. Þetta er engu að síður sláandi mikil notkun.

Hagstæð fjármögnun á bílum og tækjum Landsbankinn býður fyrirtækjum og einstaklingum hagstæða fjármögnun á nýjum og notuðum bifreiðum og atvinnutækjum.

Landsbankinn

landsbankinn.is

410 4000

9


BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR

Samgönguöryggi ógnað með fíkniefnaakstri

Ó

gnvægileg þróun er að eiga sér stað sem rekja má til fíkniefnaaksturs í umferðinni. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs slösuðust 47 einstaklingar í umferðarslysum vegna fíkniefnaaksturs sem er mikil fjölgun miðað við sama tímabil á síðasta ári. Fjölgunin nemur um 124% en á sama tímabili á árinu 2017 slasaðist 21 einstaklingur. Af heildarfjölda alvarlega slasaðra fyrstu fjóra mánuði ársins eru 14% vegna fíkniefnaaksturs og 9% vegna ölvunaraksturs. Lögreglan og Samgöngustofa hafa hafið samvinnu með það að markmiði að vinna að því með öllum ráðum að fækka fjölda slysa vegna fíkniefnaaksturs.

10

Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri á Samgöngustofu, segir í samtali við FÍB þessa þróun mikla ógn við heilsu landsmanna, ekki bara þeirra sem eru í fíkniefnum, heldur líka hinna sem í sakleysi sínu eru á ferð í umferðinni. „Við sjáum mikla aukningu í fíkniefnaakstri og af spáin, sem byggð er á tölum ársins 2017, gengur eftir munum við aðeins sjá fram á aukningu. Miklu fleiri munu slasast af völdum fíkniefnaaksturs heldur en okkur hefði órað fyrir. Þetta er aðeins ein birtingamyndin á fíkniefnavandanum,“ segir Þórhildur í samtalinu við FÍB. Þórhildur segir að nú standi fyrir dyrum ákveðnar viðræður milli Samgöngustofu og lögreglunnar um hvaða aðferðum væri hægt að beita til að stemma stigu við þessari þróun. Takmarkanir eru á hvað þessar tvær stofnanir geti lagt að mörkum af því að vandamálið sé miklu viðtækara en þær ráða við. Þórhildur segir engar töfralausnir á borðinu en þetta mál varði samfélagið allt. Þetta snýst ekki aðeins um eftirlit eða forvarnir heldur beinist þetta að heilbrigðis- og félagamálayfirvöldum.

Svona viðtækur samfélagsvandi verður ekki meðhöndlaður eftir á eða með þröngum aðgerðum. Það þurfi í rauninni að eiga sér stað miklu meira samstarf. „Við höfum í hyggju að efla samstarfið við lögregluna sem er aðalsamstarfsaðili okkar. Við erum að sjálfsögðu alltaf opin fyrir samstarfi við aðila sem málið varðar. Þetta er spurning um hvaða leiðir er hægt að fara, hverjir eiga að koma að borðinu og hver á að hafa forgöngu um málaflokkinn. Heilbrigðisyfirvöld eru að takast á við þetta vandamál á hverjum einasta degi og félagsmálayfirvöld þá ekki síður. Þessi birtingarmynd að saklaust fólk verði beinlínis fórnarlömb fíkniefnaaksturs er bara í rauninni ný staða sem við erum að sjá í fyrsta skipti í þessu mæli. Við erum ekki að skera okkur frá öðrum löndum og þetta er vaxandi vandamál víðar en hér. Við höfum miklar áhyggjur að því að samgönguöryggi okkar allra er ógnað með áhættu hegðun fárra en þó sífellt fleiri,“ sagði Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri á Samgöngustofu, í samtali við FÍB.


11


BÍLAPRÓFUN FÍB VIÐTAL

Áskoranir og spennandi verkefni „Þegar nefnt var við mig að taka við þessu starfi fannst mér það strax áhugavert. Starfið kemur frá annarri hlið en ég hef verið í akkúrat í þessum bransa. Það eru margar áskoranir í þessu starfi, það er fjölbreytt og ég er að taka við verkefnum. Því þarf ég að koma mér inn í þau enda eru mörg stór mál þar á ferð. Spennandi verður að komast í gegnum þau, klára þau, koma nýjum verkefnum að og sjá hvert við ætlum að stefna í framtíðinni,“ sagði María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, í viðtali við FÍB-blaðið. María Jóna tók við starfi framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins síðasta sumar af Özuri Lárussyni. María hafur starfað í bílgreininni í tæpa tvo áratugi, nú síðast sem framkvæmdastjóri viðskiptatengsla og síðar framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. Áður var hún yfirmaður viðskiptatengsla hjá Toyota ásamt því að vera sérfræðingur og verkefnastjóri við innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Arion banka. María Jóna útskrifaðist með MS.c. í fjármálum og stefnu-mótun frá Copenhagen Business School árið 2012 og var áður með BS.c í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. María hefur þegar hafið störf hjá Bílgreinasambandinu. Bílgreinasambandið er samtök atvinnurekenda í sölu ökutækja, vöru og þjónustu þeim tengdum. Í dag eru 155 aðildarfélagar að sambandinu, þ.e. almenn bílaverkstæði, bílasölur, bílaumboð, hjólbarðaverkstæði, málningarog réttingaverkstæði, ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar, varahlutasalar og aðrir þjónustuaðilar í bílgreininni. Hér á landi starfa um fjögur þúsund manns í greininni. María Jóna segir mjög áhugavert að starfa innan bílgreinarinnar og þá alveg sérstaklega á þessum tímum þegar þróunin er gríðarlega hröð. Starfið sé fjölbreytt og umfram allt mjög spennandi. 12

Vitum ekki í raun hvað framtíðin ber í skauti sér „Það eru margir óljósir þættir og við vitum ekki í raun hvað framtíðin ber í skauti sér. Bílaframleiðendur eru að fóta sig áfram þó að þeir séu búnir að setja sér nokkuð sterka stefnu um hvert þeir vilji fara. Þar ráða miklu umhverfisvænir bílar, sjálfakandi bílar og við sjáum að þróunin í þessum efnum er komin á fulla ferð. Ég held að á næstu 3-5 árum verði hröð þróun. Við erum afskaplega vel í stakk búin til að nýta þessa orku sem fyrir hendi er. Stefnan er auðvitað María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdarstjóri Bílgreinasambands Íslands að gera landið okkar umhverfisvænna og koma bílum segir María Jóna. sem menga mikið jafnt og þétt af María Jóna er innt eftir viðbrögðum götunum. Þetta tekur að sjálfsögðu tíma en við þurfum öll að leggjast á Bílgreinasambandsins við skýrslu um árarnar, bæði hjá bílgreininni sjálf „Skatta á ökutæki og eldsneyti 2020 og stjórnvöld. Við þurfum að marka – 2025“. Hún segir að niðurstaðan stefnu til lengri tíma litið hvert við sé ánægjuleg á mörgum sviðum, að ætlum að fara í þessum málum. Mér tekið hafi verið tillit til ábendinga finnst vanta upp á það, borgin og sambandsins og að vinnan með bæirnir eru að gera sitt en betur má stjórnvöldum hafi verið góð. ef duga skal. Margt jákvætt er búið að Bílgreinasambandið telji að um góða gerast hvað varðar innviði á síðustu lendingu sé um að ræða en með meiri tveimur til þremur árum. Einkageirinn samskiptum við stjórnvöld muni mál er búinn að taka svolítið af skarið en skýrast enn frekar. við verðum öll að vinna saman,“ segir -Hvernig sérð þú fyrir þér bílasölu á María Jóna. næstunni? Bílafloti landsmanna er einn sá elsti í Evrópu. -Rafbílar eru mikið í umræðunni. Hvernig sérðu fyrir þér þróunina hvað „Bílafloti landsmanna er rúmlega þá snertir? 12 ára gamall og það er slæmt. Við „Þróunin er komin af stað og ég sé vorum komin á gott skrið fyrir 2008 en hana gerast hægt og bítandi. Á næstu þá kom stöðnun. Við þurfum að taka árum verður jákvæð þróun en svo í á honum stóra okkar til að ná okkur framhaldinu verður stökk þar sem aftur á strik með það að markmiði við vorum á fulla ferð í rafbíla og aðra að yngja bílaflotann eins hratt og vistvæna bíla. Spennandi tímar eru við getum. Það tekst ekki án þess að framundan hvað þessa bíla áhrærir,“ lækka verð á bílum og ég held að það


sé svigrúm hjá stjórnvöldum að gera það. Einnig má aðstoða þá sem þurfa að losna við gamla og mjög mengandi bíla þar sem öryggisstaðlar þeirra eru orðnir gamlir. Þessum bílum þurfum við að koma af götunni svo að við komum nýjum bílum inn í staðinn,“ segir María Jóna. Mjög spennandi fyrir ungt fólk að starfa í þessum geira Hún segist sjá fram á einhverjar breytingar á verði bíla á næstunni vegna þess að framleiðendur hafi þurft að fara í ákveðnar aðgerðir til að standast hinn nýja Evrópustaðall. Þessu samfara verður einhver breyting á en hún verður ekki eins mikil og áætlað var í fyrstu. „Ég sé fram á spennandi tíma í bílgreininni á næstu árum en hröð þróun er á öllum sviðum. Maður veit varla hvað gerast mun handan við hornið hjá bílaframleiðendum. Nýjungar gerast hratt og þeir sem vinna í þessum bransa eru alltaf að fást við ný viðvangsefni. Mjög spennandi er fyrir ungt fólk að koma inn í þennan geira um þessar mundir. Framfarir á þessu sviði eru svo ótrúlegar og því mikil hvatning að setjast á skólabekk og læra þessi fræði,“ segir María Jóna, framkvæmdastjóri Bílgreinasambands Íslands, í spjalli við FíB-blaðið.

Rangt eldsneyti á breska lögreglubíla kostar milljónir N ýlega fjölluðu breskir fjölmiðlar um að í tæplega þrjú hundruð tilfellum væri sett rangt eldsneyti á lögreglubíla þar í landi. Mistök af þessu tagi eru því að gerast næstum því daglega og kosta breskt samfélag milljónir króna á hverju ári. Lögregluyfirvöld gripu til þess ráðs að merkja bíla sérstaklega til áminningar um að rétt eldsneyti sé sett á bílana. Það hefur borið þann árangur að slíkum tilfellum hefur fækkað. Tölur frá Bretlandi sýna að árlega setja breskir bíleigendur um 150.000 sinnum rangt eldsneyti á bíla sína.

Sumir kannast eflaust við að hafa sett rangt eldsneyti á bílinn sinn. í langflestum tilfellum er það þegar að fólk setur bensín á dísilbíla sína. Mistök á hinn veginn eru sjaldgæfari. Muni fólk eftir að gæta að sér þegar það tekur eldsneyti skal hér minnt á eftirfarandi: Bensíndælustútarnir eða dælubyssurnar á bensínstöðvunum eru með grænum lit en dísilbyssurnar eru svartar. Áfyllingarstútar eða – hálsar á bensínbílum eru þrengri en áfyllingarhálsar á dísilbílum. Dælustútar á bensíndælunum á bensínstöðvunum eru sömuleiðis grennri en stútarnir á dísildælunum.

Rafbílar í Noregi renna út N

orðmenn hafa sýnt rafbílum mikinn áhuga og í dag er um 145.000 rafbílar skráðir í landinu. Langflestir þeirra eru á Oslóarsvæðinu en þeim fer jafnt og þétt fjölgandi á landsbyggðinni. Norðmenn hafa sett það markmið að hafa minnst tvær hraðhleðslustöðvar á fimmtíu kílómetra fresti. Það þykir háleitt markmið enda er landið stórt en hleðslustöðvarnar eru forsenda þess að rafbílar verði litnir sömu augum og bílar sem brenna jarðefnaeldsneyti.

Ekkert lát er á sölu rafbíla í Noregi en fleiri en 20.000 Norðmenn bíða eftir að kaupa rafbíl. Þegar tölur annars staðar frá eru skoðaðar kemur í ljós að Noregur er í algjöru forystuhlutverki hvað rafbílavæðinguna áhrærir. Nissan Leaf er langvinsælasti bíllinn en þar í landi var tíuþúsundasti bíllinn afhendur eiganda sínum á dögunum.

voru teknar í notkun í apríl 2014. Þá voru einungis 94 rafbílar og 3 tengiltvinnbílar skráðir á Íslandi.

Skráðir rafog tengiltvinnbílar á Íslandi eru samtals 7.968. Fyrstu hlöður ON 13


Hyundai hlotnast heiður fyrir skapandi hönnunarstefnu H

FRÉTTIR

yundai Motor er farsælasta „merki ársins 2018“ (e. Brand of the Year 2018) að mati yfirdómnefndar Red Dot Design Award sem tilkynnt hefur fyrirtækinu um aðalverðlaunin í ár en þau voru afhent við hátíðlega athöfn í Berlín í síðustu viku. Þetta eru ein fjölmargra verðlauna sem Hyundai hafa hlotnast frá Red Dot í gegnum tíðina fyrir skapandi, spennandi og frumlega hönnun. Þeirra á meðal eru hönnunarverðlaun Red Dot fyrir i-fólksbílalínuna þar sem allar gerðir hafa hlotið verðlaun Red Dot, IONIQ-þrenninguna, borgarsportjeppann Kona, sem nú er einnig að koma sem 100% rafbíll og loks nýja rafknúna vetnisbílinn Nexo sem margir bíða eftir í ofvæni að komi á markað. Red Dot veitir árlega mikinn fjölda verðlauna fyrir framúrskarandi hönnun ólíkra framleiðsluvara en árlega leggja dómnefndir þess mat

á um fimm þúsund vörur frá um það bil tvö þúsund framleiðendum áður en í ljós kemur hvaða aðilar standa upp úr í hverjum flokki. Red Dot er í dag umfangsmesta alþjóðlega samkeppni heims á sviði vöruhönnunar. Fjölbreytt samstarf Aðalverðlaun Red Dot sem Hyundai hlotnast í ár eru ekki síst til komin vegna farsællar hönnunarstefnu fyrirtækisins, vel úthugsaðra og útfærðra tæknilausna, mikilla gæðakrafna í framleiðslu og loks framúrskarandi mannauðs á sviði vörustjórnunar fyrir merkið sem gert hefur fjölda samstarfssamninga við ólík fyrirtæki sem skara fram úr hvert á sínu sviði. Samstarfið gerir Hyundai kleift að bjóða viðskiptavinum sínum framúrskarandi gæðabíla sem búnir eru fyrsta flokks búnaði, hvort sem er

á sviði öryggis eða afþreyingar. Dr. Peter Zec prófessor, stofnandi og framkvæmdastjóri Red Dot Design Award, segir að Hyundai takist ítrekað að kynna viðskiptavinum sínum frumlegar og skapandi lausnir og því sé áhugavert að fylgjast með mikilli velgengni fyrirtækisins á mjög mettuðum markaði þar sem erfitt sé að skara fram úr.

Audi þarf að greiða yfir hundrað milljarða í sekt Þ

ýskir dómstólar komust að þeirri niðurstöðu á dögunum að sekta þýska bílaframleiðandann Audi, sem er dótturfyrirtæki Volkswagen, um 800 milljónir evra sem samsvarar um 108 milljörðum íslenskra króna vegna útblásturs frá bílum fyrirtækisins sem sýndu minni útblástur en hann í raun var. Þar er átt við V6- og V8 dísilvélar sem Audi smíðaði og settar voru á markað með óviðeigandi hugbúnaðaraðgerð. Ljóst er að þessi sekt mun óneitanlega koma niður á rekstri fyrirtækisins á næstu misserum. Audi sendi frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að fyrirtækið sættist á sektina og lýsir yfir fullri ábyrgð. 14

Þegar saga málsins er skoðuð var það 18. júní í sumar að tilkynnt var um handtöku Ruperts Stadlers, stjórnarformanns þýska bílaframleiðandans Audi. Handtökuna mátti rekja til rannsóknar á nýju útblásturshneyksli í Þýskalandi og vildu saksóknarar með handtökunni koma í veg fyrir að Stadler kæmi mikilvægum gögnum undan sem gætu reynst mikilvæg við rannsóknina. Þess má geta að Audi innkallaði hátt í 900 þúsund bíla vegna málsins á síðasta ári en eftir skoðun þurfti ekki að laga nema nokkuð hundruð þeirra.

Þetta mál minnir óneitanlega á útblásturshneykslið hjá Volkswagen sem upp kom í september 2015. Í stuttu máli gerðist það, að komið var fyrir hugbúnaði eða forriti í tölvum bílanna og skynjar það þegar byrjað er að mengunarmæla þá. Búnaðurinn gangsetur þá hreinsibúnað í útblásturskerfi bílsins sem annars er lítt eða ekki virkur í venjulegri daglegri notkun hans. Þetta þýðir að mengunarmælingin sýnir mjög fegraða mynd af losun NOx sambanda og sótagna sem eru krabbameinsvaldar.


Toyota hlaut umhverfisverðlaun atvinnulífsins

U

mhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent þann 17. október s.l. við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Toyota er umhverfisfyrirtæki ársins og veitti Úlfar Steindórsson, forstjóri fyrirtækisins, þeim viðtöku við athöfn í Hörpu. „Þessi verðlaun eru okkur mikils virði og starfsfólki okkar góð hvatning. Stofnendur fyrirtækisins sýndu mikla framsýni í umhverfismálum og hófu stuðning við skógrækt fyrir tæpum þremur áratugum. Með því var lagður grunnurinn að þeirri umhverfisstefnu sem við fylgjum í dag. Toyota styður enn við skógrækt og við höfum fylgt því eftir með stuðningi við endurheimt votlendis,“ sagði Úlfar. ,,Öll erum við á sama báti og berum saman ábyrgð á umhverfi okkar. Þetta á jafnt við um daglegt líf einstaklinga, starfsemi fyrirtækja og stefnumörkun opinberra aðila. Við hjá Toyota höfum verið með alþjóðlega umhverfisvottun í 10 ár og högum starfsemi okkar samkvæmt þeim ströngu viðmiðunum sem þar eru settar. Sá rammi utan um starfsemina sem vottunin setur er öflugt tæki til að takast á við þær áskoranir í umhverfismálum sem blasa við á hverjum degi,“ sagði Úlfar ennfremur.

Hjá Toyota vinna um 200 starfsmenn og fyrirtækið velti 21 milljarði á síðasta ári. Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að regluleg þjálfun er notuð til að auka áhuga starfsfólks á umhverfismálum.

en bæði starfsmenn og viðskiptavinir eru hvattir til að flokka úrgang og tekur Toyota þátt í kostnaði við grænar tunnur starfsmanna. Í fyrstu voru lítil skref stigin en þáttaskil urðu þegar vottað umhverfisstjórnunarkerfi var innleitt árið 2008.

„Umhverfisstefna Toyota er endurskoðuð á hverju ári og markmiðið er að ná meiri árangri ásamt því að tryggja öryggi og velferð starfsfólks sem tekur virkan þátt.“

Á myndinni frá vinstri: Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota, Ágústa Steingrímsdóttir umhverfisog öryggisstjórn Toyota, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Bjartur Máni Sigurðsson umhverfis- og öryggisstjórn Toyota, Ragna Sara Jónsdóttir formaður dómnefndar og Kristján Þorbergsson fjármálastjóri Toyota og annar eigenda.

Endurvinnsla er mikilvæg og fer hlutfall óflokkanlegs sorps hjá Toyota stöðugt minnkandi og er nú komið niður í 13% af heildarúrgangi. Það er gott bæði fyrir umhverfið og reksturinn

Ekki láta veturinn koma á óvart! skoðaðu fjölbreytt úrval af vetrarvörum á fib.is

fl

skó

njó

el s wv no

erð av

60

43

kr.

S

Dráttartaug Verð: 1840 kr.

Startkapplar Verð: 2400 kr.

Sætishlíf m. hita

Verð: 4246 kr.

15


Skylt að gera ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla

FRÉTTIR

U

mhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð nr. 669/2018 um breytingu á byggingarreglugerð, nr. 112/2012. Reglugerðin varðar breytingar sem tengjast orkuskiptum í samgöngum. Nú er lögð sú skylda á hönnuði íbúðarhúsnæðis að gera ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hvert bílastæði. Við annað húsnæði skal í hönnunargögnum sýna hvar slík tenging er möguleg. Með þessari breytingu á byggingarreglugerðinni er lögð áherslu á mikilvægi orkuskipta í samgöngum, þó að gerðar séu minni kröfur varðandi aðrar byggingar en íbúðarhúsnæði. Gert er ráð fyrir að Mannvirkjastofnun gefi út leiðbeiningar um framkvæmdina. FÍB fór fram á breytingar í anda þessara ,,nýju“ reglugerðar fyrir um 20 árum í samvinnu við Landvernd og fleiri aðila. Herferðin þá tengdist átaki og hvatningu til bíleigenda að nota mótorhitara sem eru raftengdir

og tímastýrðir. Þessi búnaður krefst aðgangs að rafmagnstenglum á bílastæðum. Við stuttar bílferðir sparast allt að 20% eldsneytisnotkun og bílvélar slitna minna. Á þessum tíma lögðu samtökin einnig áherslu á það í erindum og á fundum, m.a. með umhverfisráðherra og borgarstjóra, að aðgengilegur raftengibúnaður við nýbyggingar

væri einnig nauðsynlegur til að byggja undir framtíðar orkuskipti í samgöngum. FÍB hefur ítrekað lagt að yfirvöldum að breyta byggingarreglugerðinni. Þessi breyting er fagnaðarefni en FÍB gerir alvarlegar athugasemdir við það að reglugerðin nær aðeins yfir íbúðarhúsnæði en undanskilur að stórum hluta atvinnuhúsnæði.

Hyundai og Audi í samstarf við þróun vetnistækni

H

yundai Motor Group í Suður-Kóreu og AUDI AG í Þýskalandi undirrituðu í sumar langtímasamning um sameiginlega vinnu við frekari þróun vetnistækni sem orkugjafa í næstu kynslóðum nýrra bíla beggja framleiðenda, ásamt Kia, dótturfyrirtæki Hyundai, og Volkswagen, móðurfyrirtæki Audi. Samstarfið tekur í senn til þróunar og framleiðslu á sameiginlegum íhlutum og tæknilausnum og er eitt helsta markmið samningsins að flýta þróun og framleiðslu á mengunarlausum bílum í þágu aukinnar sjálfbærni og frá sjónarhorni umhverfisverndar. Fyrsta skrefið í samstarfinu er að báðir samningsaðilar veita gagnkvæman aðgang að núverandi tæknilausnum fyrirtækjanna, þar á meðal þeim sem búa að baki þróun og framleiðslu Hyundai ix35 og 16

Nexo en enginn bílaframleiðandi hefur jafn langa reynslu af slíkri tækni og Hyundai sem hóf almenna sölu rafknúins vetnisbíls í ársbyrjun 2013. Um 500 rafknúnir vetnisbílar af gerðinni ix35 eru nú í umferð í átján Evrópulöndum, þar á meðal tíu á Íslandi. Hjá Volkswagen AG ber Audi ábyrgð á þróun vetnistækni allrar samstæðunnar og fær fyrirtækið nú þegar fullan aðgang að tæknilausnum og íhlutum Hyundai á vetnissviði.

Hyundai Motor Group og Audi hafa þegar sammælst um að leita frekari tækifæra í samstarfi félaganna en núverandi samningur kveður á um. Meðal annars er ætlunin að skoða sameiginlega innleiðingu á iðnaðarstöðlum á sviði vetnistækni sem hvatt getur til aukinnar nýsköpunar á þessu sviði og þar með frekari þróun og framleiðslu á rafknúnum vetnisbílum sem hagkvæms valkosts á almennum bílamarkaði. Af hálfu Hyundai Motor Group gefur samstarfssamningurinn fyrirtækinu aukin tækifæri til að styrkja samkeppnishæfni félagsins enn frekar á tæknisviði rafknúinna vetnisbíla, ekki síst innan dótturfyrirtækisins Hyundai Mobis sem leiðir þróun og framleiðslu íhluta fyrir vetnistækni fyrir Hyundai og Kia.


Ný nagladekk frá Michelin á markaðinn

D

ekkjaframleiðandinn Michelin var að koma með á markað ný nagladekk sem bera heitið X-ICE north 4. Dekkin hafa nú þegar vakið mikla athygli fyrir gæði og öryggi en Michelin hefur lagt mikla vinnu í gerð dekkjanna. Starfsmenn frá N1 og öðrum söluaðilum um allan heim eru á einu máli um að þessi dekk sýna að Michelin er skrefinu framar en aðrir á markaðnum. Hjólbarðaverkstæði N1 hafa öll hlotið vottun samkvæmt gæðakerfi Michelin en þá vottun fá eingöngu þau hjólbarðaverkstæði sem uppfylla ströngustu gæðakröfur framleiðandans. N1 býður upp á fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu þar sem metnaður og reynsla starfsfólks endurspeglast í faglegum og öruggum vinnubrögðum. Mikið af nýjungum í gangi Hermann Hreinsson, vörustjóri Michelin hjá N1, var inntur eftir þessum nýjum dekkjum og sagði hann að í þeirra huga væri hér á ferð algjör bylting í dekkjum. Þarna er mikið af nýjungum í gangi og má í því sambandi benda á að búið er að auka gríðarlega fjölda nagla í hverju dekki. Þau eyða veginum minna en þekkst hefur áður sem er jákvætt svo að ekki verður meira sagt. Mér finnst athyglisvert við þessi dekk að mynstrið í þeim er sérstaklega hannað fyrir hverja breidd á dekki. Ekki á aðeins í hlut eitt mynstur sem er blásið upp og minnkað eftir stærðum dekkja sem þýðir að þau hámarka grip og lágmarka hljóð í dekki við hverja stærð fyrir sig. Þetta kostar mikla þróunarvinnu og fjármagn en framleiðandanum hefur tekist þetta og eru þessi dekk því með þeim allra hljóðlátustu á markaðnum. Miðið við það sem við sjáum í prófunum eru dekkin að skara framúr á vel flestum sviðum,“ sagði Hermann í spjalli við FÍB-blaðið. Michelin er að bæta sig á öllum sviðum Hermann var spurður um hvað þessi

X-ICE north 4 dekk hafa fram yfir önnur dekk sem Michelin hefur verið með á markaðnum. Hermann svaraði því til að Michelin sé að bæta sig á öllum sviðum en fyrirtækið hefur alltaf kappkostað við að fórna engu einu til þess að ná fram einhverjum góðum árangri annars staðar. ,,Það er gaman að segja frá því að Michelin er bæta sig hvert sem litið er. Má þar nefna á ís, í endingu, upptöku og styttri bremsuvegalengd án þess að fórna neinu. Það sem vekur athygli með X-ICE north 4 dekkin er að naglafjöldinn er tvöfaldaður sem eykur öryggið til muna án þess að eyða vegum meira. Það er komin reynsla á þessi dekk erlendis þar sem þau hafa ennfremur farið í gegnum stórar prófanir. Reynslan af þeim hefur ekki fengist enn hér á landi en ég er alveg fullviss um að þau eiga eftir að reynast frábærlega við aðstæður og skilyrði sem hér eru. Ég hef starfað lengi á þessum vettvangi en hef aldrei kynnst eins góðum gæðum og X-ICE north 4 dekkin búa yfir,“ sagði Hermann. Neytandinn vill öryggi og endingu Hermann sagði að N1 ætli að leggja einna mesta áherslu á X-ICE north nagladekkin í dekkjavertíðinni sem fram undan er. Hermann segir að fólk vill vera öruggt, hafa góða endingu og þægindi sem Michelin er þekkt fyrir. Hlakka mikið til vetrarins ,,Michelin er risastór framleiðandi á markaðnum, annars vegar hvað mannafla áhrærir og hins vegar að fyrirtækið lætur háar fjárhæðir af hendi rakna í alla þróunarvinnu sem lýtur að dekkjaframleiðslunni. Michelin hefur kynnt nýjungar þar að lútandi á síðastliðnum tveimur árum og af þeim sökum er ég mjög spenntur fyrir þessum nýju dekkjum. Michelin mun eins og alltaf setja öryggið á oddinn og markmiðið er að lengja líftíma dekkjanna án þess að slíkt hafi áhrif á grip eða öryggi notandans. Við prófuðum dekkin á ísilögðum

Hermann Hreinsson, vörustjóri Michelin

vötnum í Svíþjóð og þar fóru sérfræðingar með okkur yfir tæknina sem liggur að baki dekkjunum. Fyrir mig sem innflytjanda og sölumann var lykilatriði að fá að kynnast þessu af eigin raun. Þegar maður hefur kynnst vöru af eigin raun er vissa fyrir því að verið sé að selja góða vöru. Ég hefði aldrei trúað því fyrir fram hve þeir væru búnir að þróa góða vöru og koma henni á markað. Mikil og hröð þróun er í allri dekkjaframleiðslu, nýjar línur koma inn og allar reglur eru mjög strangar þegar kemur að dekkjaframleiðslu. Til að standast reglur og kröfur almennt þarf framleiðandinn að sýna að hann sé með vöru í fremstu röð. Vonandi heldur það áfram því að þannig viljum við hafa það. Dekk í dag eru ekki það sama og var fyrir 10–15 árum og bílarnir sem við keyrum í dag eru einnig breyttir með tilliti til öryggis. Ég hlakka mikið til vetrarins og sjá hvaða viðtökur nýju dekkin fá,“ sagði Hermann Hreinsson, vörustjóri Michelin hjá N1, í spjallinu við FÍB-blaðið.

17


BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR

Daimler hyggst á næstunni koma fram með fleiri atvinnurafbíla

A

tvinnubíladeild Daimler, sem framleiðir Mercedes-Benz atvinnubíla, hefur fjárfest í bandaríska fyrirtækinu Proterra. Þetta var tilkynnt á IAA atvinnubílasýningunni í Hannover fyrir stuttu. Samstarf Daimler og Proterra var tilkynnt á IAA atvinnubílasýningunni í Hamborg

Proterra er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu rafmagnsstrætisvagna. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og er með höfuðstöðvar í Greenville í SuðurKaliforníu. Fyrirtækið hefur náð miklum árangri í framleiðslu á rafknúnum strætisvögnum.

Mercedes-Benz og hefur fyrirtækið þegar byrjað framleiðslu á fyrstu rafknúnu atvinnubílum sína eCitaro og eActros.

Daimler mun nota nýjustu rafhlöður og tæknivæddan drifbúnað frá Proterra í atvinnubíla MercedesBenz. Samstarfið mun m.a. fela í sér framleiðslu á rafknúnum skólabílum fyrir Bandaríkjamarkað. Mikill hugur er í atvinnubíladeild Daimler hvað varðar framtíð rafknúinna atvinnubíla

Mercedes-Benz mun einmitt sýna þessa nýjustu rafknúnu atvinnubíla sína á IAA atvinnubílasýningunni í Hannover þar sem rafknúni strætisvagninn eCitaro og rafknúni flutningabíllinn eActros verða í sviðsljósinu. Báðir bílarnir eru 100% hreinir rafbílar með engan útblástur og eru þ.a.l. einnig

sérlega hljóðlátir. Mercedes-Benz varð fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum til að kynna rafmagnsatvinnubíl á IAA atvinnubílasýningunni í Hamborg árið 2016. Fyrirtækið er stærsti atvinnubílaframleiðandi heims og hyggst á næstunni koma fram með fleiri atvinnurafbíla, m.a. sendibílana vinsælu Vito og Sprinter. Þeir munu bera heitin eVito og eSprinter og verða hreinir rafbílar.

Framkvæmdastjórn ESB með þrjá bílaframleiðendur til rannsóknar

F

ramkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað þann 18. september s.l. að hefja ítarlega rannsókn á því hvort BMW, Daimler (Mercedes-Benz) og VW (Volkswagen, Audi, Porsche) hefðu átt í samráði sem bryti í bága við auðhringareglugerð ESB, til að koma í veg fyrir samkeppni um þróun og innleiðingu á tæknilausnum til að hreinsa útblástursmengun frá bensín- og dísilbílum. Tilkynningin kemur nákvæmlega þremur árum eftir að dísilhneyksli Volkswagen – oft kallað Dieselgate – komst í hámæli. Þessi nýja rannsókn framkvæmdastjórnar ESB beinist sérstaklega að því hvort fyrirtækin hafi átt með sér samráð um að halda niðri tækniþróun og úreldingu mengunarvarnakerfa í bílum. Þarna er m.a. um að ræða sértæk hvarfakerfi (SCR) sem ætlað er að draga úr skaðlegri losun köfnunarefnisoxíða frá dísilbílum og „Otto“ agnasíur („OPF“) sem draga úr skaðlegri losun sótagna frá bensínbílum. 18

Farið var af stað með þessa rannsókn í kjölfar húsleitar fyrir um ári hjá BMW, Daimler,Volkswagen og Audi í Þýskalandi. Rannsóknin var hluti af frumgreiningu framkvæmdastjórnarinnar á hugsanlegu samráði á milli bílaframleiðenda varðandi þróun tæknibúnaðar. Framkvæmdastjórnin hefur einnig upplýst að fyrirtækin sem nú eru til rannsóknar hefðu einnig fundað

um fleiri samkeppnisatriði, svo sem almennar kröfur um gæði bílavarahluta og samræmingu gæðaprófunaraðferða. Þau hefðu einnig skipst á tæknilegum gögnum um eigin bíla sem eru á markaði. Fram kemur í yfirlýsingu framkvæmdastjórnar ESB að á þessu stigi séu ekki nægilega sterkar vísbendingar um hvort þessir fundir fyrirtækjanna hafi fallið undir samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja á markaði.


Framleiðslu á Volkswagen bjöllunni verður hætt F ramleiðslu á Volkswagen bjöllunni verður hætt á næsta ári en þýski bílaframleiðandinn tilkynnti þetta á dögunum. Áður en framleiðslunni verður endanlega hætt hefur verið ákveðið að setja á markað sérstakar viðhafnarútgáfur. Framleiðsla á þessum þekkta bíl hefur verið í verksmiðju fyrirtækisins í Mexíkó en verður núna hætt í júlí á næsta ári. Salan á bjöllunni hefur dregist verulega saman á síðustu árum, ekki síst í Bandaríkjunum sem hefur verið aðalmarkaðssvæði bílsins um árabil. Megin ástæða fyrir því að framleiðslunni verður hætt er að

forsvarsmenn Volkswagen ætla að leggja meiri árherslu á framleiðslu á rafmagnsbílum. Forsvarsmenn Volkswagen segja þessa ákvörðun tekna að vel athuguðu máli en þó með vissum trega. Vinsældir bjöllunnar voru miklar lengst af og hafa markað djúp spor í sögu fyrirtækisins. Tímarnir eru þó breyttir og mikil umskipti í vændum í bílaiðnaðinum.

Síðustu bjöllunni var ekið af færibandi í Þýskalandi í upphafi árs 1978 og höfðu þá nær tuttugu milljón eintök verið framleidd í heiminum, þar af sextán milljónir í Þýskaland en eftir

það var bíllinn framleiddur í Mexíkó.

Hekla hf. fékk umboð fyrir Volkswagen hér á landi árið 1952. Innflutningurinn fór hægt af stað enda háður opinberum leyfum á þeim árum. Bjallan öðlaðist þó miklar vinsældir hér á landi enda var hún að mörgu leyti hentug fyrir íslenskar aðstæður. Sléttur botn og þungi á afturhjólum vegna þess að vélin var yfir þeim fleytti bílnum til dæmis yfir marga snjóskafla þar sem aðrir sátu fastir. Hekla flutti inn um fjórtán þúsund bjöllur árin 1953–1978, þorra þeirra eftir að bílainnflutningur var gefinn frjáls 1961.

Er sjúkrataska í þínum bíl? Verð frá aðeins 2100 kr. www.FIB.is

19


BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR

Góð samvinna og tekið tillit til ábendinga Bílgreinasambandsins B

ílgreinasambandið átti á haustmánuðum fund með Fjármálaráðuneytinu þar sem farið var yfir skýrslu um „Skatta á ökutæki og eldsneyti 2020 – 2025“ sem kom út 17. ágúst síðastliðinn. Í tilkynningu frá Bílgreinasambandinu kemur fram að niðurstaða skýrslunnar er í grófum dráttum ánægjuleg og vel unnin. Tekið hefur verið tillit til ábendinga sambandsins og samvinna hefur verið góð. Á sama tíma er ánægjulegt að sjá sýn til lengri tíma þar sem unnið er með umhverfissjónarmið í huga. Á heildina litið telur Bílgreinasambandið að um góða lendingu sé að ræða. Þær hækkanir á ökutækjum sem vænta má verða ekki ef Alþingi gerir ekki breytingar á skýrslunni og fylgir eftir þeirri vinnu og tillögum sem 20

í henni . Séð var fram á að með 10 flokka prósentukerfi myndu ökutæki hækka umtalsvert vegna breytinga á fyrirkomulagi á mælingu útblásturs. Þá kemur fram að skýrslan leggur til að fella niður 10 flokka prósentukerfið um næstu áramót og taka upp línuleg vörugjöld miðað við útblástur ökutækja. Með þeirri leið er verið að koma í veg fyrir hækkunina og verður það að teljast jákvætt fyrir neytendur og bílgreinina í heild. Þó eru atriði í skýrslunni sem Bílgreinasambandið fór yfir með fulltrúum fjármálaráðuneytisins og taldi hafa verið yfirsjón eða að gæta þurfi betra samræmis. Samkvæmt skýrslunni getur árið 2019 orðið misræmi á vörugjöldum ökutækja. Annað atriði sem Bílgreinasambandið telur að þurfi að endurskoða er að í

skýrslunni er breyting á vörugjöldum fornbifreiða og fornbifhjóla 40 ára og eldri. Í dag eru 13% vörugjöld á þennan flokk ökutækja en samkvæmt nýrri tillögu munu þessi farartæki fara inn í línulega álagningu frá og með 2019 og öll lenda í 65% vörugjaldaflokki. Vörugjöld á pallbifreiðar er þriðji þátturinn sem ber að skoða . Þar er mikið misræmi og minni en léttari ökutæki fá á sig hærri vörugjöld en stærri og meira mengandi pallbifreiðar sem bera í dag 0% vörugjöld. Meirihluti þessara bifreiða er til einkanota og telur Bílgreinasambandið að þar eigi að gæta samræmis. Sambandið hvetur þó til að ökutæki notuð í atvinnuskyni eigi að fá niðurfellingu.


Borgarlína í framkvæmd 2020 S

igurður Ingi Jóhannsson samgönguog sveitarstjórnarráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík ásamt bæjarstjórum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu fyrir skemmstu viljayfirlýsingu um að hefja viðræður um fjárfestingar í stofnvegum og hágæðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Í viljayfirlýsingunni, sem var undirrituð á BSÍ, kemur fram að stofnaður verði verkefnahópur undir forystu Hreins Haraldssonar fyrrverandi vegamálastjóra og mun hann skila tillögum 15. nóvember n.k.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að undirritaðir aðilar eru sammála um að stefna skuli að sjálfbæru, kolefnishlutlausu borgarsamfélagi og öflugri almenningssamgöngum með fjölbreyttum ferðamáta í takt við loftslagsáætlun stjórnvalda og áherslur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Hópnum er ætlað að skila tillögum sem eyða muni flöskuhálsum til að bæta umferðarflæði og efla umferðaröryggi. Þá kemur fram í yfirlýsingunni að framkvæmdir við hágæða almenningssamgöngur hefjist 2020. Þá verði skoðaðar nýjar fjármögnunarleiðir, m.a. með nýrri gjaldtöku ríkis og gjaldtökuheimildum fyrir sveitarfélög.

Hópurinn skal taka tillit til markmiða í samgönguáætlun 2018–2033, aðgerðaráætlun í loftslagsmálum 2018–2030, þ.m.t. orkuskiptum, svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins (Höfuðborgarsvæðið 2040) og áætlun um loftgæði á Íslandi 2018–2029.

Niðurstöður hópsins verða síðan lagðar fyrir ríkisstjórn og bæjarstjórnir og borgarstjórnir til staðfestingar en þær tillögur sem kalla á breytingu á samgönguáætlun munu fara til Alþingis.

Bílasala í Evrópu tók mikinn kipp

B

ílasala tók almennt mikinn kipp í Evrópu í sumar og mátti sjá í sölutölum mikla breytingu í þessum efnum þegar í júlí og hefur hún haldið áfram síðan. Salan jókst um tæp 11% í júlí en gerði gott betur í ágúst en þá nam aukningin um 32%. Sérfræðingar fullyrða að ástæða fyrir þessari söluaukningu megi rekja til breytinga á eldsneytis- og orkunotkun nýrra bíla (WLTP) sem tóku gildi 1. september s.l. Í Evrópu voru um 1,4 milljónir bílar nýskráðir í júlí en flestar nýskráningar voru á Spáni eða tæpar 20%. Mikil aukning var enn fremur í Þýskalandi, á Ítalíu og í Bretlandi. Jafnan er bílasala treg í ágúst en þá standa sumarfrí í Evrópu sem hæst. Á því var heldur

betur breyting í ár og bílasala var með líflegasta móti. Samkvæmt tölum frá Bílgreinasambandi Íslands kemur fram að sala á nýjum bílum dróst saman um tæp 24% í september. Í þeim mánuði voru 935 bílar nýskráðir en í sama mánuði í fyrra voru þeir 1.266. Þegar nýskráningar eru skoðaðar kemur fram að sala á rafmagnsbílum hefur aukist talsvert eða sem nemur 34% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Nýskráningum í tengitvinnbílum hefur aukist um 29%.

Á fyrstu átta mánuðum ársins voru nýskráðir 15.033 fólksbílar sem gerir 11,8% samdrátt frá sama tímabili í fyrra. Af þeim námu nýskráningar bensínbíla 42%, dísilbíla 39%, rafmagnsbílar 12% og aðrar tegundir minna. 21


BÍLAPRÓFUN FÍB TÆKNIMÁL

Breytt landslag í götulýsingu

R

eglur um útilýsingu voru settar árið 1407 í London þegar íbúum var skipað að hengja upp ljós við hvert hús til að auka öryggi. Fyrstu staðlar um veglýsingu komu fram 1927 og voru fyrir ökumenn til að aka um götur án þess að nota ljós. Fyrstu staðlar, sem byggðust á rannsóknum fyrir ökumenn, voru gefnir út árið 1985. Það var ekki fyrr en árið 2013 að farið var að leggja sérstaka áherslu á lýsingu í stöðlum fyrir gangandi og hjólandi. Ljósmælingar Lýsing var mæld á götum höfuðborgarsvæðisins árið 2016 fyrir Reykjavíkurborg og Vegagerðina. Mældir voru 360 km og hér að neðan má sjá niðurstöðurnar í samanburði við veglýsingarstaðla.

að því að lýsing væri 2-4 sinnum meiri en þörf var á. Flestar götur voru hannaðar fyrir 15-30 árum þegar fyrstu staðlarnir komu út en í dag eru breyttar hönnunarforsendur sem miða við að lýsingin sé ekki meira en 1,5 sinnum meiri en lýsingarflokkunin segir til um. Fyrir hvern er götulýsingin? Gata getur verið einungis fyrir ökutæki eða með blandaðri umferð akandi, gangandi og hjólandi. Algengt er að gleymist að gera ráð fyrir öðrum vegfarandum sé lýsing hönnuð fyrir bíla. Menn muna hins vegar einnig eftir bílunum sé hún hönnuð fyrir gangandi og hjólandi. Markmið Reykjavíkurborgar er að lýsing fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur skuli vera að minnsta kosti jafnmikil eða meiri en á aðliggjandi samsíða vegum. Þessi viðmið eru að verða sífellt algengari og gera lýsingu betri. Framtíðin í götulýsingu

Margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að götur eru mjög illa eða illa lýstar s.s. vegna trjágróðurs og gamalla pera sem missa ljósstreymi þegar þær eldast. Yfirlýsing gatna getur stafað af því að áður fyrr var miðað við að lýsing uppfyllti lágmarkskröfur en þó var ekki hugað 22

Fyrsta kynslóð lýsingar var opinn eldur, síðan komu olía og gas, rafmagnsperur og nú er komin fram fjórða kynslóðin sem felst í rafeindarásum eða LED (e. Light Emitting Diodes). Með notkun LEDlampa nást betri ljósgæði, auðveldara er að greina liti í umhverfinu og hægt

er að stýra birtunni þangað sem hún á að fara og einnig styrkleika hennar. Hægt er að ná fram miklum orkusparnaði með notkun LEDlampa eða allt að 90% ef notaðar eru stýringar en algengur sparnaður er 60-80% á vegum og göngustígum. Í lömpum sem Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa sett upp er svokölluð miðnæturdimming sem lækkar lýsingu um allt að 50% frá miðnætti til um 6 að morgni og innan fárra ára verður hægt að stýra hverjum lampa fyrir sig. Með tilkomu sjálfkeyrandi bíla færist þörfin á að sá sem ekur bílnum sjái veginn yfir á að aðrir vegfarendur sjái bíl sem er að keyra á veginum og sitt nærumhverfi. Nú þegar er farið að ræða um að nota dróna við veglýsingu þannig að ljósastaur verði hleðslustöðvar fyrir þá. Þannig mætti til dæmis lýsa gangandi og hjólandi vegfarendum með því að láta dróna elta þá í stað þess að hafa staura og lampa með ákveðnu millibili. Fólk er að vakna til vitundar um að hægt er að auka gæði útilýsingar og vill hafa áhrif á hvort lýsingin er köld eða hlý, mikil eða lítil, hvert hún beinist eða hvort yfirhöfuð sé þörf á henni. Ljósmengun er líka til og stjörnurnar og norðurljósin skipta okkur máli. Stuðlum að betri ljósvist. Guðjón L. Sigurðsson, lýsingarhönnuður IALD


Hvað kostar þjónustuskoðun nýrra bíla?

Í

takt við flóknari bíla og aukna ábyrgð framleiðenda þá er þjónustuþáttur bílsins að verða sífellt mikilvægari. Reglulegar þjónustuskoðanir eru því orðnar skilyrtar af framleiðendum svo þeir vilji og geti ábyrgst að bíllinn standist þær kröfur sem til hans eru gerðar. Í þjónustubók bílsins kemur fram hvenær og hversu oft þurfi að mæta til skoðunar. Algengt er að skoðanir séu framkvæmdar einu sinni á ári eða 15-20 þúsund km fresti hvort sem kemur á undan. Í sumum tilfellum þarf einnig að mæta í smurþjónustu á milli skoðana. Hvað er framkvæmt Eins og gefur að skilja þá eru ferlarnir mismunandi á milli bíla, framleiðenda og jafnvel útfærslna á hverjum bíl

fyrir sig. Auk smurþjónustu þar sem skipt er um olíu og síur þá er farið yfir almennt ástand bílsins eins og vökva, ytra byrði, undirvagn og ljósa- og öryggisbúnað. Í sumum tilfellum er farið ýtarlegar yfir bremsukerfið og jafnvel skipt um bremsuvökva.

Eitt af mikilvægum þáttum í þessum skoðunum snýr að tölvubúnaði bílsins. Þjónustuskoðun gefur þjónustuaðila tækifæri á að lesa tölvu bílsins og þannig fengið ágætis mynd af almennu ástandi og hvort eitthvað megi betur fara. Framleiðendur gefa reglulega út uppfærslur í þeim tilgangi að betrumbæta búnað og fyrirbyggja bilanir. Þessar uppfærslur geta verið á öllum mögulegum búnaði eins og mótor, skiptingu, útvarpi og jafnvel sætum.

Kostnaður Það er því góð regla að kynna sér væntanlegan kostnað við reglulegt þjónustu þegar keyptir eru nýjir eða nýlegir bílar. Af þessu tilefni tók FÍB saman kostnað við þjónustuskoðanir á meðalstórum fólksbíl fyrstu tvö árin miðað við 15.000 km akstur á ári. Sérstök athygli er vakin á því að kostnaður við einstaka skoðanir getur verið breytilegur og spila þar ýmsir þættir inn í eins og ástandið á lofsíum, ljósaperum, rúðu- og kælivökva. Í sumum tilfellum eru þjónustuskoðanir á 20.000 km. fresti eða eitt ár og er þá lægri kostnaður á km m.v. aðra bíla sem þurfa að mæta inn á 15.000 km fresti. Félagsmenn FÍB njóta afsláttarkjara hjá fjölda umboða, sjá nánar aftast í blaðinu.

23


Porsche Roadshow 2018

P

orsche Roadshow er árleg kynning þýska sportbílaframleiðandans Porsche á því nýjasta og flottasta sem hann hefur upp á að bjóða hverju sinni. Undanfarin ár hefur Bílabúð Benna haft milligöngu um að Ísland sé einn af viðkomustöðum Þjóðverjanna og var því slegið upp veglegri fjögurra daga kynningu á hringakstursbraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni. Að þessu sinni sendi Porsche finnska rallýökumanninn Jussi Kumpumäki sem er sérhæfður leiðbeinandi við akstur á Porsche og hvernig skuli ná fram hámarks afköstum úr hverjum bíl fyrir sig. Þá voru einnig með í för fimm Porsche bifreiðar þ.e. Cayenne S og

24

Turbo sportjeppar, 718 Cayman GTS, 718 Boxster GTS, Porsche 911 Targa. Þá hófst fjörið. Átta manna reynsluaksturshóp var skipt niður á fjóra bíla. Ökumannsskipti voru síðan milli ferða þannig að allir höfðu tækifæri til að spreyta sig. Fyrsti bíllinn, sem undirritaður fékk í hendurnar, var sportjeppinn Cayenne S en fyrr á árinu fékk hann andlitslyftingu að utan og innan og var auk þess kominn nýr og öflugri mótor sem skilar 440 hestöflum. Þetta er fjórhjóladrifinn fimm manna lúxusbíll með 19 sentimetra undir lægsta punkti

og því kom ánægjulega á óvart hversu ótrúlega vel þessi tveggja tonna bíll hélst á vegi þrátt fyrir að vera ekið eins gókartbíl í gegnum brautina. Næstur á dagskrá var fagurrauður 718 Boxster sem er hinn klassíski sportbíll, tveggja sæta blæjubíll með vélina fyrir miðju. GTS-útfærslan hefur fjögurra sílindra turbomótor sem skilar 365 hestöflum og dugir það ágætlega til að koma bílnum í 100 km hraða á aðeins 4,3 sekúndum. Það færðist breitt bros yfir andlitið þegar bíllinn stökk af stað með tilheyrandi dekkjavæli. Eftir nokkra krefjandi hringi, þar sem rödd Kumpumäki hljómaði í talstöðinni um


hvernig skyldi beygja, bremsa og gefa í, var kominn tími fyrir næsta bíl. Það var 718 Cayman GTS sem er að mestu leyti sams konar bíll og Boxter fyrir utan að vera með heila yfirbyggingu í stað blæju. Þrátt fyrir þennan „litla“ mun skilar það sér strax að hafa heila yfirbyggingu sem eykur á styrk bílsins og skilar sér í stífari bíl. Þetta fannst sértaklega við svigakstur á milli keilna á miklum hraða. Þannig er stýring og svörun betri en hins vegar er það ekki alltaf af því slæma að bíllinn sé örlítið lifandi og snúi aðeins uppá sig í kröppum beygjum. Allir bílarnir eru með sjö þrepa

tveggjakúplinga sjálfskiptingu (PDK) nema Cayenne sem hefur átta þrep. Sportstillingarnar eru í tveimur þrepum og er það góður kostur því að efra þrepið, Sport Plus, leyfir spólvörninni og stöðugleikastýringunni að slaka aðeins á og þannig getur ökumaðurinn beitt bílnum frekar, áður en aðstoðarkerfin grípa inn í. Að lokum var komið að stóra bróður, 911 Targa með 450 hestafla mótor í skottinu sem skilar honum í 100 km hraða á aðeins 3,7 sekúndum. Þrátt fyrir að vera með stærri mótor, sæti fyrir fjóra og fjórhjóladrif er hann einungis 180 kg þyngri en 718 bíllinn. Þegar lagt

var að stað lá ljóst fyrir að framundan væri full vinna við að koma aflinu niður í malbikið og um leið að halda honum á réttri braut. Hann hneigðist frekar til að ýta framendanum á undan sér í gegnum beygjur og þurfti hann almennt að láta hafa meira fyrir sér. Allir höfðu bílarnir mismunandi kosti og erfitt væri að benda á hinn fullkomna bíl. Sjálfur var ég þó hrifnastur af Boxster-bílnum þar sem ég vil hafa bílinn lifandi og að hann láti hafa aðeins fyrir sér. Hins vegar væri Cayenne rökréttasti kosturinn ef svo mætti að orði komast þar sem notagildi, afl og akstureiginleikar spila vel saman.

25


Vegagerðin tekur við Hvalfjarðargöngum V

FRÉTTIR

egagerðin tók við rekstri Hvalfjarðarganga sunnudaginn 30. september en tveimur dögum áður var hætt að innheimta veggjald fyrir að fara um göngin. Það hafði þá verið innheimt í 20 ár eða frá opnun ganganna árið 1998. Skrifað var undir samning þess efnis við munna ganganna Akranesmegin af þessu tilefni.

í handraða til að endurgreiða öllum þeim sem keypt hafa miða og lykla.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, Gunnar Gunnarsson, stjórnarformaður Eignarhaldsfélagsins og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar skrifuðu undir samning um yfirtöku

ríkisins eða Vegagerðarinnar sem veghaldara á Hvalfjarðargöngum. Gylfi Þórðarson framkvæmdastjóri Spalar vottaði gjörninginn. Göngin eru þjóðarinnar.

þá

eign

íslensku

Framvegis verða því Hvalfjarðargöng hluti vegakerfisins á sama hátt og önnur göng landsins og hægt að aka um þau án þess að greiða fyrir það — rétt eins og stefnt var að fyrir 20 árum síðan. Óhætt er að segja að gerð og rekstur Hvalfjarðarganga hafi tekist mjög vel í alla staði. Það sést m.a. á því að gjaldið fyrir að aka í gegn var jafn hátt á fyrsta degi og þeim síðasta. Spölur hf. og Eignarhaldsfélagið Spölur ehf. skila því af sér göngunum þegar öll lán hafa verið gerð upp og með fé

Hækkun á bílasköttum í fjárlagafrumvarpinu

S

amkvæmt áherslum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í fjárlagafrumvarpi 2019 kemur fram að heildarframlag til samgöngumála nemur um 41,3 milljörðum króna og eykst um 12,3% á milli ára. Samstaða hefur verið á meðal almennings og þingmanna um að forgangsraða þessum mikilvæga málaflokki. Þannig hafa fjárveitingar til samgöngumála hækkað um 12 milljarða undanfarin þrjú ár. Mest er aukning til framkvæmda og viðhalds á vegakerfinu, þannig er áætlað að verja um 23,5 milljörðum króna við nýframkvæmda á vegum og til brýns viðhalds. Framlög til annarra verkefna á sviði samgöngumála hækka nánast á öllum sviðum. Framlag til þjónustu á vegakerfinu, það er almenn þjónusta og snjómokstur og hálkuvarnir að vetri, eykst um 708 milljónir á milli ára. Sé rýnt nánar í fjárlagafrumvarpið kemur í ljós að rúmlega átta þúsund krónum dýrara verður að reka meðal26

stóran fjölskyldubíl á ári, verði hækkanir í fjárlagafrumvarpinu að veruleika. Þetta er mat Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Eldsneytishækkanir í frumvarpinu bætast ofan á bensínverð sem er það hæsta í Evrópu. Fjárlagafrumvarp 2019 er þykkt og mikið í sniðum, alls um fjögur hundruð og fimmtíu blaðsíður. Þar eru lagðar til ýmiss konar hækkanir á bíla og eldsneyti. Það er álit FÍB að þetta komi til með að bitna á fjárhag almennra bíleigendafjölskyldna. Þannig ætlar ríkisstjórnin að auka tekjur ríkisins með hækkun vörugjalda af ökutækjum og bensíni, hækkun á kolefnisgjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi

og bifreiðagjaldi. Alls nemur hækkunin tæplega 2,6 milljörðum króna. Hver er kostnaðurinn? FÍB hefur reiknað út að kostnaður við bensín á meðalstóra fjölskyldubíl aukist vegna hækkunar vörugjalda um rúmlega tvö þúsund krónur á ári, vegna hækkunar bensíngjalds um rúmlega 3.400 krónur á ári og kolefnisgjalds um 2000 krónur ári. Samtals eykst kostnaðurinn um tæplega átta þúsund og eitt hundrað krónur. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á að verja auknu fé til viðhalds og úrbóta í samgöngumálum árin 2019–2023. Í áætluninni er gert ráð fyrir að Vegagerðin fái 161 milljarða á umræddu tímabili en ráðherra samgöngu- og sveitarstjórna hefur lagt fram þingsályktunartillögu um fimm ára samgönguáætlun. Þar er aðgerðaráætlun fyrir fyrsta fimm ára tímabil innan 15 ára samgönguáætlunar. Unnið verður að því markvisst að Ísland verði í hópi Evrópuþjóða sem búa við mesta umferðaröryggi.


Volvo V60 er bíll ársins á Íslandi B

andalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) stendur á ári hverju fyrir vali á bíl ársins og var valið tilkynnt við athöfn í húsnæði Blaðamannafélags Íslands 4. október s.l. Sigurvegarinn í ár var Volvo V60. Þetta árið uppfyllti 31 bíll það skilyrði að vera gjaldgengur í valinu en bílarnir þurftu annaðhvort að vera nýir bílar eða af nýrri kynslóð. Forvalsnefnd fjögurra aðila í Bandalagi íslenskra bílablaðamanna völdu 12 þeirra í úrslit í fjórum flokkum að þessu sinni, eftir að hafa prófað þá alla. Þessir fjórir flokkar voru: Minni fólksbílar, stærri fólksbílar, minni jeppar og stærri jeppar. Það kom síðan í hlut níu manna valnefndar að lokaprófa þessa tólf bíla og var það gert sem fyrr á Kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni. Að prófunum loknum var þeim svo gefin einkunn hvað 12 mismunandi þætti þeirra varðar. Ceed, T-Roc og Touareg unnu flokka sína Kia Ceed reyndist sigurvegari í flokki smærri fólksbíla, í öðru sæti varð Mercedes Benz A-Class og Ford Focus

í því þriðja. Í flokki stærri fólksbíla stóð bíll ársins, Volvo V60, efstur á blaði, í öðru sæti var Alfa Romeo Giulia og Kia Stinger í því þriðja. Í flokki minni jeppa trónaði hæst Volkswagen T-Roc, í öðru sæti varð Skoda Karoq og Hyundai Kona í því þriðja. Í flokki stærri jeppa var Volkswagen Touareg sigurvegarinn, Volvo XC40 lenti í öðru sæti og BMW X3 í því þriðja. Í síðastnefnda flokknum var minnsti munur á milli þeirra þriggja bíla sem náðu í úrslit, eða aðeins 27 stig.

Kia Ceed sigraði í flokk smærri fólksbíla.

Nokkrir yfirburðir Volvo V60 Bíll ársins þessu sinni, Volvo V60, fékk 807 stig í einkunnagjöf dómnefndar og hafði sigur með þónokkrum yfirburðum. Þegar stig allra 12 bílanna lágu fyrir kom í ljós að næst flestu stigin fékk Alfa Romeo Giulia með 782 stig, en langt er síðan að bíll frá Alfa Romeo hefur verið í vali á Bíl ársins og að þessu sinni virðist Alfa Romeo hafa aldeilis stimplað sig inn með stæl. Þriðja flestu stigin hlaut svo Volkswagen Touareg, eða 776 stig. Í fjórða sætinu reyndist svo Kia Ceed með 773 stig og í því fimmta Volvo XC40 með 767 stig.

VW T-Roc sigraði í flokki minni jeppa

VW Touareg sigraði í flokki stærri jeppa

Bíll ársins þessu sinni, Volvo V60, fékk 807 stig í einkunnagjöf dómnefndar og hafði sigur með þónokkrum yfirburðum.

27


Veturinn nálgast

Bestu negldu og ónegldu vetrarhjólbarðarnir 2018

Þ

að er útilokað að búa til hjólbarða sem er jafnvígur á allar aðstæður en það hefur aldrei verið auðveldara en nú finna þann hjólbarða sem best passar ríkjandi akstursaðstæðum á hverjum stað.

Þú getur fundið það vetrardekk sem best hæfir aðstæðum þar sem þú ekur mest. Sum vetrardekk eru frábær í tilteknu vetrarfæri en verulegra síðri í öðrum gerðum vetrarfæris. Gott dæmi um það er hið nýja Michelin nagladekk. Það er í sérflokki í öllum akstri á ís en er síst dekkjanna í þessari könnun í tveimur prófunarþáttum á malbiki. Í flokki ónegldra vetrardekkja má benda á Goodyear: Það er best í tveimur prófunarþáttum á votu malbiki en meðal þeirra slökustu á ísnum. Önnur dekk í könnuninnin eru meira alhliða. Þau eru hvergi best og hvergi verst heldur. Dæmi um slíkt dekk er hið óneglda Nokian vetrardekk. Þessi könnun er eins og fyrri kannanir hér, verkfæri sem hjálpar þér að finna það vetrardekk sem hefur flesta þá eiginleika sem best hæfa þínum vetraraðstæðum og þinni bifreiðanotkun.

Neglt Michelin-vetrardekk eru án efa vetrarhjólbarðinn fyrir þig ef þú þarfnast sérstaklega hámarks veggrips á svellglæru. Grip hjólbarðans í svellið er það besta sem mælst hefur hingað til í þessari könnun. Það er ekki síst að þakka miklum fjölda nagla en þeir eru hvorki meira né minna en 250 talsins – 154 fleiri en í Michelin-nagladekkinu í þessari prófun fyrir nákvæmlega ári. Það dekk varð þá í tíunda sæti í prófuninni en þetta nýja lendir í öðru sæti. Rétt er þó að minnast þess að vissulega er ekki alltaf svell á vegum og götum að vetrarlagi og á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mesti umferðarþungi á Íslandi streymir fram 28

og aftur, staldrar ísingin sjaldnast lengi við. Fleiri kostir eru í boði en góð nagladekk. Það sýnir sig t.d. í árangri ónegldu vetrarhjólbarðanna, ekki síst frá Pirelli sem kemur þægilega á óvart að þessu sinni fyrir gott ísgrip. Við skulum einnig minnast þess að það er einfaldlega ekki hægt að búa til hjólbarða sem er jafnvígur á allt færi bæði um vetur og sumar. Trúlega er mjög langt í að það takist að búa til vetrardekk sem er best í öllum greinum í prófuninni og það sannast hér á Michelin- nagladekkinu sem nær ekki efsta sætinu í þessari könnun. Þetta próf er ekki síst til þess að fólk geti valið það sem best hæfir akstursaðstæðum þess, aksturslagi og að einhverju leyti fjárhag.


29


Hjólbarðakannanir FÍB-blaðsins eru fengnar frá norska systurfélaginu NAF sem kostar gerð þeirra með nokkrum fjölmiðlum í Noregi, Svíþjóð og Rússlandi. Vetrarhjólbarðakönnunin nær sérstaklega til dekkja sem eru gerð til að mæta vetraraðstæðum á norðlægum slóðum. Þeir sem prófa dekkin eru sérfróðir atvinnumenn og fagmenn hjá Test World í Ivalo í Finnlandi. Ekið er á þeim bæði utan- og innanhúss þar sem hægt er að stjórna nákvæmlega öllum aðstæðum. Dekkin sem prófa á, eftir því sem hægt er, eru keypt í almennum hjólbarðaverslunum til að forðast dekk sem hugsanlega hafa verið aðlöguð að prófununum. Þegar nýjar dekkjagerðir eru ekki enn komnar í verslanir þegar könnunin hefst er þeirra aflað hjá framleiðendum en síðar bornar saman við sömu gerðir úr almennri verslun og ætluð almennum viðskiptavinum.

Rásfesta Hemlun Aksturseiginleikar Aksturseiginleikar og veggrip í akstri er metið með tímatökum á brautum sem eru ýmist ísilagðar, snjóþaktar eða auðar og votar. Margir ökumenn aka bílnum til skiptis og markmiðið er að ná sem stystum brautartíma þannig að ökulagið er hranalegt og samsett úr hröðun, hemlun og hröðum akstri í beygjum. Lokaeinkunnir eru reiknaðar út frá meðaltali brautartíma allra ökumanna. Veggnýr Ökumenn mæla og meta veggný hjólbarðanna eftir akstur á grófu vegyfirborði. Þeir meta veggnýinn bæði sem ökumenn og farþegar í aftursæti. Niðurstaðan er meðaltal mælinga og einkunna bílstjóranna. Þetta er blindpróf. 30

Hemlunarvegalengdir eru mældar á snjó, ís, votu og þurru malbiki. Hvert hemlunarpróf er margendurtekið (15– 20 sinnum) við mismunandi hitastig yfir nokkurra daga tímabil. Á ís er hemlað af 20 km hraða niður í 5. Í snjó er hemlað frá 35 km hraða niður í 5. Á votu og þurru malbiki er hemlað af 80 km hraða niður í 5. Hemlaprófanirnar á snjó og ís fara fram bæði utan- og innanhúss við mismunandi hita- og rakastig sem þar má stjórna og þannig lágmarka áhrif veðurs á niðurstöður. Hröðun Grip dekkjanna á ís og í snjó er mælt með því að ná upp mestri mögulegri hröðun bílsins. Tími hröðunarinnar á tilteknu hraðabili er síðan mældur. Á ís er hraðabilið 5–20 km/klst. Í snjó er það 5–35 km/klst. Þetta er margendurtekið yfir nokkurra daga tímabíl, bæði innan – og utanhúss.

Rásfestan er metin með akstri á snjó eða á ísilögðu vegyfirborði með skröpuðum rásum. Þrír ökumenn meta hver í sínu lagi rásfestuna í þessum aðstæðum og er einkunninn meðaltal af mati þeirra. Þetta er einnig blindpróf. (ökumenn vita ekki hvaða dekkjategund er undir hverju sinni). Aksturstilfinning Til viðbótar við brautartíma gefa ökumennirnir hverri dekkjategund persónulega einkunn fyrir það hversu stöðugt og öruggt þeim fannst það í akstri. Þar skiptir miklu hvernig þeim fannst dekkið hegða sér í miðmunandi akstursaðstæðum, eins og t.d. hvernig og hversu fljótt það missti veggrip í beygju og hversu erfitt eða létt það var að ná tökum á akstrinum eftir að slíkt hefur gerst. Þannig aðstæður koma upp í venjulegum akstri svo að þessi vitneskja getur skipt miklu máli. Þetta er blindpróf sem þýðir að tilraunaökumennirnir vita aldrei hvaða tegund er undir bílnum hverju sinni.


Nagladekk

Sérsniðin fyrir hálku og snjó

Í hálku og snjó virka nagladekkin best, en það þarf

ekki að gilda fyrir akstur á blautu eða þurru malbiki.

1 N

okian Hakkapeliita 9

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

Allar prófanir voru framkvæmdar á Ford Focus með dekkjastærðinni 205/55R16

190 T(190 km/h) 94 3. vika 2018 Pólland Max1 21.990 kr.

Nokian hjólbarðinn lætur aðeins í sér heyra en hefur að öðru leyti yfirburði í flestum prófunarþáttum. Þetta dekk hemlar mjög vel þar á ís og í snjó og er það mjög mikilvægt. Það er aðeins hið óneglda Goodyear sem hemlar betur á votu malbiki. Nokian dekkið er auk þess meðal bestu nagladekkjanna á þurrum, auðum vegum. Það er afar traust í akstri og fyrirsjáanlegt, ógjarnt á að yfirstýra. Veggnýr er yfir meðallagi.

95,9

STIG

HEMLUN Á ÍS

HEMLUN Í SNJÓ

HEMLUN BLAUTT MALBIK

HEMLUN ÞURRT MALBIK

Hemlunarlengd í metrum, frá 20 í 5 km/h

Hemlunarlengd í metrum, frá 35 í 5 km/h

Hemlunarlengd í metrum, frá 80 í 5 km/h

Hemlunarlengd í metrum, frá 80 í 5 km/h

Michelin

10,1

Continental

12,7

Goodyear

33,0

Bridgestone

28,5

Nokian

10,2

Gislaved

12,8

Nokian

34,5

Goodyear

28,7

Goodyear

10,5

Goodyear

12,8

Sava

35,5

Pirelli

28,7

Continental

10,6

Nokian

12,8

Nokian

35,8

Dordman

29,6

Hankook

10,6

Hankook

13,0

Continental

36,1

Michelin

30,0

Gislaved

11,5

Michelin

13,0

Michelin

36,2

Continental

30,1

Bridgestone

11,8

Continental

13,0

Goodyear

36,6

Bridgestone

30,2

Sava

12,3

Bridgestone

13,1

Michelin

36,7

Nokian

30,2

Continental

13,1

Sava

13,1

Continental

36,8

Michelin

30,4

Pirelli

13,2

Bridgestone

13,1

Bridgestone

36,9

Sava

30,5

Bridgestone

13,3

Goodyear

13,1

Bridgestone

37,0

Nokian

30,9

Nokian

13,5

Hankook

13,1

Hankook

37,4

Continental

31,0

Goodyear

13,8

Michelin

13,2

Pirelli

37,5

Goodyear

31,1

Hankook

14,0

Nokian

13,2

Gislaved

37,6

Hankook

31,1

Michelin

14,2

Pirelli

13,2

Hankook

38,6

Hankook

31,2

Nordman

14,4

Nordman

13,3

Nordman

39,2

Gislaved

31,3

Nagladekk - Ónegld dekk

31


g

in ýs gl

Au Meira til skiptanna 32


Nagladekk 2

3

Michelin X-ICE North 4

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð á eitt dekk:

250 T(190 km/h) 94 2. vika 2018 Rússland N1 22.500 kr.

95,7 STIG

Þetta dekk er einfaldlega frábært á ís. Fyrirrennari þess, sem var kannaður í fyrra, hafði 96 nagla í slitfletinum og var þá meðal slökustu nagladekkja á ís. Þetta dekk er hins vegar með 250 nagla og kannski gerir það gæfumuninn. Ekkert hinna nagladekkjanna stenst nú samanburð við Michelin. Veggrip þess er ekki aðeins frábært á ís heldur einnig á snjó. Hins vegar eru eiginleikar þess á votu malbiki meðal þeirra slökustu.

4

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

190 T(190 km/h) 94 5. vika 2018 Suður-Kórea Sólning 17.485 kr.

94,0 STIG

Hið nýja Hankook dekk veldur því miður vonbrigðum á þurrum vegi. Það er vel viðunandi í flestum prófunarþáttum í snjó og á ís. Sérstaklega er grip í ísinn gott og veitir trygga aksturstilfinningu í þeim aðstæðum. Á auðum vegi, þurrum eða blautum, er ekki það sama að segja. Hemlunarvegalengdir eru langar og aksturstilfinning á þurrum vegi er sú ótryggasta. Heldur háværara en þau bestu.

6

Bridgestone Noranza 001

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

7

Dekkið hemlar vel á þurru malbiki og stendur þeim bestu í snjó og á ís lítilsháttar að baki. Talsverðar hemlunarvegalengdir eru í bleytu og reynsluökumennirnir gáfu því ekki háa einkunn fyrir aksturstilfinningu. Þeir töldu dekkið vera of mjúkt og of seint að bregðast við. Hemlunargrip þess á þurru malbiki væri hins vegar sú besta meðal 92,4 negldu dekkjanna. STIG

190 T(190 km/h) 94 38. vika 2017 Þýskaland Sólning 21.485 kr.

94,8 STIG

Mjög lágvært. Best í snjónum. Hefur einnig ágætt grip á ís. Gefur trygga aksturstilfinningu og gerir ekkert óvænt. Ökumennirnir töldu allir að þetta væri besta nagladekkið í akstri, bæði á votum og blautum auðum vegi. Hljóðlátasta nagladekkið.

Goodyear Ultragrip Ice Arctic

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

130 T(190 km/h) 94 2. vika 2018 Pólland Klettur 24.800 kr.

92,6 STIG

Fremur veikburða á ís. Þar hefur það veikt beygjugrip og hemlun í meðallagi. Á hinn bóginn hemlar það ágætlega í snjó. Aksturstilfinning á votu malbiki er ein sú besta og betri en hjá mörgum ónegldum dekkjum. Veggnýr er í meðallagi.

Gislaved Nord Frost 200

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

190 T(190 km/h) 94 2. vika 2018 Rússland Betra Grip 27.517kr.

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

5

Hankook Winter I*Pike RS2 W429

Continental Icecontact2

8

Sava Eskimo Stud

Fjöldi nagla: Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

130 T(190 km/h) 94 33. vika 2017 Þýskaland -

Gislaved er nú undirmerki Continental og í lægri verðflokki en Continental og má segja að það endurspeglist í samanburðinum milli merkjanna tveggja. Hemlunarvegalengd á þurru malbiki er sú lengsta í könnuninni og almennt eru hemlunarog aksturseiginleikar þess á auðu malbiki í slakara lagi. Miðað við nagladekk er það hljóðlátt. 91,8 STIG

130 T(190 km/h) 94 34. vika 2017 Pólland Klettur 17.800 kr.

Þetta er veikasta nagladekkið í snjó og á ís. Það yfirstýrir mjög á ísnum og þar getur verið erfitt að hemja bílinn. Það spjarar sig betur á auðu malbiki, sérstaklega á þurru þar sem það er í góðu meðallagi og aksturstilfinningin er fremur traust. Næst háværasta dekkið í þessari prófun.

91,0 STIG 33


Naglalaus vetrardekk

örugg í vetrarfærðinni

Þrátt fyrir að nagladekk séu best við akstur í hálku þá geta naglalaus dekk hentað betur.

1 Continental Contivikingcontact 7 Á www.fib.is er hægt að skoða könnunina nánar þar sem farið er ítarlega í einkunnargjöf.

Hraðaþol: Burðarþol: Framleiðsludags: Framleiðsluland: Söluaðili: Verð per. dekk

T(190 km/h) 94 44. vika 2017 Þýskaland Sólning 21.990 kr.

Þetta dekk er augljós sigurvegari í flokki ónegldu vetrardekkjanna og ræður það vel við allar sígildu æfingarnar sem tengjast hreinu vetrarfæri. Í snjónum er það jafnvel betra en mörg negldu dekkin. Það er helst á þurrum vegi að dekkið sýnir einhverja veikleika (þ.e. hemlun og aksturstilfinningu). Hljóðlátasta vetrardekkið.

91,3

STIG

VEGGNÝR

HRÖÐUN Á ÍS

HRÖÐUN Í SNJÓ

Blindpróf í fram- og aftursæti á lélegu undirlagi og máluðu

Hröðun í sekúndum frá 5 til 20 km/h

Hröðun í sekúndum frá 5 til 35 km/h

Continental

10,0

Hankook

4,2

Continental

4,0

Goodyear

10,0

Michelin

4,2

Goodyear

4,0

Nokian

10,0

Nokian

4,2

Hankook

4,0

Bridgestone

9,0

Bridgestone

4,4

Michelin

4,0

Hankook

9,0

Continental

4,8

Nokian

4,0

Michelin

9,0

Sava

4,9

Gislaved

4,1

Pirelli

9,0

Gislaved

5,2

Continental

4,1

Nordman

8,0

Goodyear

5,4

Goodyear

4,1

Continental

6,0

Continental

6,4

Hankook

4,1

Gislaved

6,0

Nokian

6,5

Nokian

4,1

Bridgestone

5,0

Pirelli

6,5

Bridgestone

4,2

Goodyear

5,0

Goodyear

6,6

Michelin

4,2

Michelin

5,0

Hankook

6,6

Pirelli

4,2

Nokian

5,0

Nordman

6,6

Sava

4,3

Sava

4,0

Bridgestone

6,8

Bridgestone

4,3

Hankook

3,0

Michelin

7,1

Nordman

4,4

34

Nagladekk - Ónegld dekk


Ónegld dekk 2

Pirelli Ice Zero FR

3

Goodyear Ultra Grip Ice 2

Hraðaþol:

T(190 km/h)

Hraðaþol:

T(190 km/h)

Burðarþol:

94

Burðarþol:

94

Framleiðsludags:

3. vika 2018

Framleiðsludags:

2. vika 2018

Framleiðsluland:

Rússland

Framleiðsluland:

Pólland

Söluaðili:

Nesdekk

Söluaðili:

Klettur

Verð per. dekk

19.990 kr.

Verð per. dekk

24.800 kr.

90,6 STIG

Dekk þetta býr yfir mjög góðum eiginleikum á ís og slagar ansi hátt upp í Continental sem hreppti efsta sætið meðal hinna ónegldu. Það er heldur veikara í snjó og á votu malbiki en nær næstbestri hemlun á þurrum vegi. Veggrip og aksturstilfinning er að öðru leyti í meðallagi á auðum vegum. Dekkið er heldur háværara en þau hljóðlátustu.

Dekkið er best allra á votu malbiki og er það mikilvægur eiginleiki í akstri, ekki síst í og við þéttbýli þar sem vetur eru mildir og rakir eða þá að hálkuvarnir séu öflugar. Einnig er dekkið ágætt í akstri á þurru malbiki en síðra á ís og í snjó. Þar er það í tæpu meðallagi og getur skrikað snögglega. Næst lágværast.

4

Nokian Hakkapeliita R3

5

Bridgestone Blizzak WS80

Hraðaþol:

R(170 km/h)

Hraðaþol:

T(190 km/h)

Burðarþol:

94

Burðarþol:

94

Framleiðsludags:

44. vika 2017

Framleiðsludags:

9. vika 2017

Framleiðsluland:

Finnland

Framleiðsluland:

Japan

Söluaðili:

Max1

Söluaðili:

Betra Grip

Verð per. dekk

21.390 kr.

Verð per. dekk

27.517 kr.

90,3

STIG

88,4 STIG

Hér náðist besti árangurinn í þeim mikilvæga þætti sem hemlun á þurrum vegi er. Aksturstilfinningin á þurrum vegi er sömuleiðis traust. Í hemlun á ís og í snjó er dekkið einnig með þeim betri. Í þeim aðstæðum eru hreyfingar þess rólegar og fyrirsjáanlegar, eins og t.d. undirstýring. Í meðallagi hávært.

Nokian stendur þeim bestu lítt að baki í snjó og á ís, er þar rásfast og svarar vel stýrinu. Það er meðal þeirra bestu á votu malbiki en undir meðallagi ónegldu dekkjanna á þurru malbiki. Aksturstilfinningin er traust og fyrirsjáanleg, sama hvernig vegyfirborðið er. Þægilega hljóðlátt.

6 Hankook Winter I*Cept IZ2

90,6 STIG

7 Michelin X-ice X13

8 Nokian Nordman RS2

Hraðaþol:

T(190 km/h)

Hraðaþol:

H(210 km/h)

Hraðaþol:

R(170 km/h)

Burðarþol:

94

Burðarþol:

94

Burðarþol:

94

Framleiðsludags:

5. vika 2018

Framleiðsludags:

17. vika 2017

Framleiðsludags:

13. vika 2018

Framleiðsluland:

Suður-Kórea

Framleiðsluland:

Rússland

Framleiðsluland:

Rússland

Söluaðili:

Sólning

Söluaðili:

N1

Söluaðili:

Max1

Verð per. dekk

16.995 kr.

Verð per. dekk

19.500 kr.

Verð per. dekk

15.990 kr.

Hankook er í slöku meðallagi ónegldu dekkjanna í ,,vetraríþróttunum“. Það hegðar sér þó rólega og fremur fyrirsjáanlega í snjónum en getur misst gripið snögglega. Á auðum vegum er það í meðallagi. Veggrip þess á votu og þurru malbiki mætti einnig vera betri. 88,1 STIG

Slakur árangur hjá þessari tegund í snjó og á ís. Sérstaklega er beygjugripið lítið, stýringin ónákvæm og undirstýring veruleg. Á auðum vegi breytist allt, sérstaklega í bleytu. Þar er dekkið á heimavelli og er næstbest. Á auðu er það rásfast og stöðugt.

87,5 STIG

Þetta dekk er ódýrari valkostur frá Nokian í Finnlandi en hann stendur því miður hinu viðurkennda og ágæta Hakkapeliita langt að baki í öllu nema einu – hemlun á þurrum vegi. Hemlun í snjó, á ís og í bleytu eru hins vegar mun síðri. Þetta er háværasta dekkið af þeim ónegldu. 86,6 STIG

35


REYNSLUAKSTUR FÍB

Reynsluakstur: Nissan Leaf

Á

rið 2010 kynnti bílaframleiðandinn Nissan til sögunar rafmagnsbílinn Leaf. Bíllinn fékk strax gríðarlega góðar viðtökur og hafa selst yfir 300.000 eintök af honum um allan heim. Hann hefur haldist í óbreyttri mynd frá upphafi og var því mikil eftirvænting eftir næstu kynslóð af þessum mest selda rafmagnsbíl í heimi. Reynsluakstursbíllinn var nýkominn til landsins að sögn sölumanns og sá fyrsti í Tekna-útgáfunni en hún er jafnframt dýrasta útgáfan og með mestum búnaði. Í boði eru þrjár útfærslur: ACENTA, N-Connect og Tekna og fela uppfærslurnar í sér stærri felgur, aukna akstursaðstoð, leðuráklæði og hljóðkerfi svo að eitthvað sé nefnt. Snerpa með jöfnu átaki. Ein stærstu viðbrigðin við akstur á rafmagnsbíl, miðað við hefðbundin bíl með sprengihreyfli, er hversu hljóðlátur og þýður hann er í akstri. Rafmagnsmótorinn skilar af sér stiglausu og jöfnu átaki hvort sem ekið sé á 30 km hraða innanbæjar eða á 90 í þjóðvegaakstri. Mótorinn er 38 hestöflum öflugri en í eldri 36

bílnum eða 148 hestöfl með 320 Nm. í tog. Mælingar á hestöflum og togi verða þó seint samanburðarhæfar við venjulegan sprengihreyfil þar sem rafmagnsmótorinn skilar öllu afli frá sér þegar í stað. Þannig getur mótorinn skellt þessum 1600 kílóa bíl upp í 100 kílómetra hraða á aðeins 7,9 sekúndum og oftar en ekki þurfti spólvörnin að grípa inn í til að koma aflinu niður í malbikið. Fjöðrunin er í stífara lagi og þá sérstaklega á 17 tommu dekkjum en grunnútgáfan kemur á 16 tommu dekkjum sem ættu að fyrirgefa ójöfnur betur, fyrir þá sem vilja aukna mýkt. Ein stærsta áskorun rafbílaframleiðenda er að draga úr aukahljóðum sem alla jafna heyrast ekki fyrir hávaða í bensín og díselvélum. Það hefur að mínu mati tekist mjög vel þar sem vind- og veghljóð eru í lágmarki en fjöðrunarbúnaður átti til að láta heyra í sér þegar ekið var yfir ójöfnur. Notkun Þá er það stóra spurningin: Hver er drægnin? Allar útgáfur verða boðnar með 40 kwh rafhlöðu sem er nær tvöföld rýmd á við fyrstu rafhlöðurnar sem voru í kynslóðinni á undan. Uppgefin raundrægni

samkvæmt nýja WLTP* staðlinum er 270 km í blönduðum akstri. Í upphafi reynsluaksturs var full hleðsla á rafhlöðum og gaf aksturstölva upp að 280 km væru til staðar miðað við fyrri akstur. Í reynsluakstrinum voru eknir tæpir 200 km við ýmsar aðstæður jafnt innan og utanbæjar og var enn 20% hleðsla eftir á rafhlöðu þrátt fyrir inngjafir og mikla notkun á rafbúnaði bílsins. Því má ætla að WLTP-mæling bílsins sé ekki fjarri rauneyðslu. Það tekur um 14 tíma að fullhlaða bílinn með hleðslutengli sem fylgir með en hann tengist venjulegri heimilisinnstungu. Aftur á móti getur full hleðsla náðst á innan við sex klukkustundum í heimahleðslustöð. Vert er að nefna að Nissan og Mannvirkjastofnun mæla ekki með stöðugri og langri notkun á þeim hleðslutækjum sem tengjast bent við heimilisinnstungu, nema í skamma stund í senn. Öryggi og ProPILOT Eins og áður segir var reynsluakstursbíllinn með öllum fáanlegum útbúnaði og fór það ekki framhjá undirrituðum þar sem tækniáhuginn fékk að njóta sín. Bíllinn er útbúinn með skynjurum og myndavélum á öllum hliðum í þeim tilgangi að hjálpa


ökumanni við hin ýmsu tækifæri sem gefast og er tjáningarformið yfirleitt „píp“ í mismunandi tónum og ljósum í mælaborði. Þannig eru allar tegundir útbúnar með umhverfisskynjurum, bakkmyndavél, sjálfvirkum neyðarhemli ef bíllinn skynjar yfirvofandi árekstur, sjálfvirkum háum geisla í framljósum sem skynjar aðvífandi umferð og einnig bíla fyrir framan. Síðan höfum við akreinavara og blindhornsviðvörun í hliðarspeglum sem lýsir upp ef bíll er utan sjónsviðs ökumanns. Auk þess er hægt að bæta við fjarlægðaskynjurum og 360⁰ myndavél svo að eitthvað sé nefnt. Allar TEKNA-útgáfur eru útbúnar ProPILOT akstursaðstoð. Nissan segir þennan búnað vera næsta skref í átt að sjálfkeyrandi bílum. Þannig getur bíllinn „læst“ sig við bílinn fyrir framan og haldið jöfnu bili en hægt er að velja um þrjú fjarlægðarstig, allt eftir aðstæðum og umferð. Þá skipti ekki máli þótt stoppað væri á rauðu ljósi því að kerfið sá sjálfkrafa um alla hemlun og lagði einnig sjálft af stað, óskaði maður eftir því. Þessi búnaður

virkaði ánægjulega vel þótt fjarlægð milli bíla í þjóðvegaakstri væri ívið stutt miðað við 90 km hraða. ProPILOT kerfið bauð einnig uppá aðstoðarstýringu sem hjálpaði til við að keyra á réttri akrein ef ökumönnum finnist þeir þurfa hjálp með það en búnaður var ekki sérlega skilvirkur og skrifast það frekar á lélegar yfirborðsmerkingar hér á landi fremur en búnaðinn sjálfan. Leggur sjálfur í stæði Í áranna rás hefur komið fram ýmis útbúnaður í bílum sem aðstoða ökumenn við að leggja í stæði, með misjöfnum árangri. Því var væntingum stillt í hóf þegar þessi búnaður var prófaður í fyrsta sinn en tónninn breyttist fljótt þar sem ProPILOT kerfið leysti verkefnið alveg furðu vel. Þegar ekið var um bílastæði skynjaði bíllinn laust stæði sem ökumaður valdi síðan á upplýsingaskjánum. Eftir það tekur bíllinn alveg við stjórninni þar sem hann stýrir bílnum á réttan stað og setur í handbremsu án allrar aðkomu

ökumanns. Þessi búnaður vakti mikla lukku hjá þeim sem sáu til og stóðst hann flest þau próf sem voru lögð fyrir hann. Það tekur hins vegar smá æfingu í að nota hann og þarf að gefa sér tíma til að læra inn á hvernig sé best að nálgast bílastæði með þetta aðstoðarkerfi í huga. Ytra útlit Nissan hefur tekist vel til við að uppfæra ytra útlitið á Leaf-inum í nútímalegt horf og ber bíllinn sterkan fjölskyldusvip Nissan með prýði. Augljóst er að hönnuðir hafa haft hemil á sköpunargleðinni og er það sagt á góðan hátt þar sem rafbílar hafa um langa hríð þurft að gjalda með sérkennilegu útliti fyrir það eitt að vera knúnir áfram með rafmagni. Tekna útgáfan kemur með led dagog aðalljósum ásamt 17 tommu álfelgum. Ánægjulegt hefði verið að sjá led lýsingu í afturljósum og hefði það gefið bílnum enn nútímalegra útlit. Háglans svart plast er áberandi bæði í framenda og kringum afturhlera en ásamt því koma allar

37


útgáfur með sílsavindskeið sem eykur enn á sportlegt útlit.

REYNSLUAKSTUR FÍB BÍLAPRÓFUN FÍB

Innra rými Aðgengi ökumanns að stjórntækjum er gott bæði í stýri og á upplýsingaskjá fyrir miðju mælaborðs. Efnisval og frágangur innréttinga er ágætur, með sportlegum bláum saumum og leðurlíki. Þá gefur flatur botn stýrishjólsins einnig ákveðið sportlegt yfirbragð. Við akstur skorti tilfinnanlega armhvílu milli framsæta ásamt geymsluplássi og er óljóst hvers vegna miðjustokkurinn þurfi að taka svo mikið pláss af fótarými fyrir farþega í framsæti. Aðgengi að aftursætum er gott og kemst 180 cm einstaklingur vel fyrir án teljandi vandræða. Stór miðjustokkur á gólfi kemur hins vegar í veg fyrir að þrjár fullorðnar manneskjur geti setið þægilega saman í aftursæti. Þrátt fyrir að vera á dýrustu tegund var enginn armpúði fyrir aftursætisfarþega. Klæðning og innréttingar í skotti ásamt, smáatriðum eins og loftljósi og frágangur umhverfis belti, benda til að megináherslan hafi verið á ökumann og umhverfi hans. Stjórnkerfi bílsins er ágætt og ættu þeir sem þekkja eldri útgáfuna af Leaf að kannast strax við sig. Það er ánægjulegt að miðstöðvar stillingar eru sjálfstæðar og auðvelt að stilla þær án þess að þurfa að fara einhverjar

krókaleiðir, eins og vill gerast á nýjum bílum í dag. Hins vegar eru stillingar í margmiðlunartækinu óþarflega flóknar, eins og t.d. á útvarpi. Vert er að geta þess að allar útgáfur koma með Apple Car Play og Android Auto sem vissulega eykur á notagildi. Teknaútgáfan bauð uppá Bose hátalarakerfi sem stóðst allar væntingar þar sem tónlist og tal fékk að njóta sín í mjög góðum gæðum. Snertiskjárinn er þokkalega nákvæmur en líklega munum við sjá uppfærslur á þessum búnaði á næstu árum. Útsýni úr bílnum er ágætt og virkar 360⁰ gráðu myndavélakerfið mjög vel þegar maður hefur vanist því að horfa einnig á skjáinn, t.d. þegar bakkað er í stæði. Eina sem mætti setja út á er staðsetning á baksýnisspegli sem er fremur neðarlega á framrúðu og skyggir því á útsýni fyrir hærri ökumenn. Skottpláss hefur verið aukið umtalsvert frá fyrri kynslóð en það er nú 435 lítrar. Sætin eru með 40/60 skiptingu og þegar þau eru felld niður má auka skottrými upp í 1176 lítra. Vegna staðsetningar á rafhlöðum falla sætin ekki flöt niður og myndast umtalsverð brík sem getur torveldað hleðslu á stærri hlutum. Niðurstaða Almennt þykir mér vel hafa tekist

til við uppfærslu frá fyrri útgáfu, bæði í útliti, tækni og akstri. Nissan virðist gera sér grein fyrir hversu rafmagnsbílamarkaðurinn er viðkvæmur og lítið svigrúm er fyrir mistök við hönnun og framleiðslu. Þrátt fyrir að halda sig innan þægindarammans við hönnun og smíði hefur Nissan tekist að framleiða 100% rafmagnsbíl sem höfðar til fjölmarga kaupanda. Bíllinn er laglegur í útliti og útbúinn öllum helsta öryggis- og tæknibúnaði sem búast má við af nýjum bílum. Rafhlöðudrægnin er búin að aukast til muna og er því rafmagnsbíllinn orðinn enn fýsilegri kostur bæði fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Nissan Leaf Acenta, sem er grunnútgáfan, kostar tæpa 4,1 milljón en fyrir 500 þúsund krónur til viðbótar er hægt að fá dýrustu útgáfuna Tekna þar sem viðbætist led framljós, stærri felgur, leður, öflugra hljómkerfi og fjölbreyttari öryggisbúnaður. Björn Kristjánsson

Nissan Leaf Tekna Aflrás: Rafmótor með stiglausri eins gíra sjálfskiptingu Afköst: 147 hestöfl / 320 Nm Verð frá: 4.250.000 kr. Drægi (skv. framleiðanda): 270 km Hraðhleðsla úr 20% í 80%: 60 mínútur. Losun CO2: 0 g/km • Staðal öryggisbúnaður • Lágur rekstrarkostnaður • Útlit • Stíf fjöðrun • Pláss fyrir þrjá í aftursæti • Flókið viðmót hljómtækja

38


Reynsluakstur: Kia Stinger

K

ia Stinger er nýr fernra dyra sportbíll sem ætlað er að etja kappi við sportlega lúxusbíla, m.a. frá Mercedes Benz, BMW og Audi. Skrefið er stórt fyrir Kia sem hingað til hefur nær einungis lagt áherslu á hagkvæma og ódýra fjölskyldubíla. Til að tryggja að frumraun framleiðandans í þessum flokki eigi erindi í þessa samkeppni var Albert Bierman, fyrrverandi varaforseti verkfræði- og tæknisviðs M-deildar BMW, ráðinn í stöðu tæknistjóra Stinger verkefnisins. Bíllinn er fáanlegur í tveimur útfærslum hér á Íslandi, GT-Line með forþjappaðri 200 hestafla 2,2 lítra, fjögurra strokka dísilvél annars vegar og GT með tvíforþjappaðri 370 hestafla 3,3 lítra V6 bensínvél. Báðar útfærslur koma með átta þrepa sjálfskiptingu og fjórhjóladrifi. Reynsluakstursbíllinn kom í síðarnefndri GT útfærslu. Stingerinn hefur hlotið mikið lof fyrir hönnun og útlit. Hann er sport- og kraftalegur en heldur þó

bersýnilega ættarsvip Kia. Þó að matið sé vissulega huglægt er afturendinn torkennilegur að mati undirritaðs og bremsuljósin, sem teygja sig fram eftir afturbrettunum, eru sér í lagi miður falleg. Líkt og venjan hefur verið í Kiabílum hingað til er Stingerinn drekkhlaðinn búnaði. Lyklalaust aðgengi, 360° myndavél, 8“ snertiskjár með leiðsögutæki, 7“ LCD skjár í mælaborði, rafstýrð Nappa-leðursæti með hita og loftkælingu, hiti í stýri, sóllúga, akreinavari með aðstoð og radarstýrður hraðastillir eru dæmi um staðalbúnað í GT-bílnum og er því lítið af aukabúnaði í boði. Innrarými Rýmið í bílnum er með ágætum, jafnvel þegar litið er til skáhallandi þaklínu yfir aftursætum. Sætin eru þægileg, veita góðan stuðning og fer vel um fjóra fullorðna um borð. Fótapláss er rúmt en há gluggalína skerðir nokkuð útsýni aftursætisfarþega og stækkar um leið blindpunkt ökumanns. Farangursrýmið kom ánægjulega

á óvart en vegna þess að bíllinn er hlaðbakur, ekki stallbakur eins og ætla mætti við fyrstu sýn, er plássið feiknastórt – heilir 406 lítrar. Að auki má fella niður aftursætin og stækkar plássið þá upp í vart trúanlega 1.114 lítra. Þegar hér er komið sögu virðist Kia Stinger gjörsamlega hafa slegið í gegn. Því miður liggur þó leiðin niður á við héðan í frá. Í fyrsta lagi má nefna yfirdrifin og óþörf stílbrigði ytra byrðis, gerviloftinntök í stuðara og á vélarhlíf auk gerviloftúttaka í afturbretti eru smekklaus og með öllu gagnslaus. Í öðru lagi má nefna hvítu leðursætin sem eftir aðeins rúma 5.600 km í reynsluakstursbílnum voru strax farin að sýna álagsmerki með krumpum og tilvonandi sliti ásamt greinilegum „gallabuxnabláma“. Þótt urmull staðalbúnaðar kunni að laða kaupendur að var tilfinningin sú að hluti búnaðarins væri fenginn frá lægstbjóðanda. Upplausnin í 360° myndavélinni reyndist ekki á pari við keppinauta auk þess sem akreinavarinn og -aðstoðin sendu 39


REYNSLUAKSTUR B BÍLAPRÓFUN FÍBFÍ TÆKNIMÁL

bílinn milli veglína, líkt og um borðtenniskúlu væri að ræða, fremur en beint í miðjuna. Aksturseiginleikar Næst víkur sögunni að akstrinum. Stingerinn er óneitanlega býsna kraftmikill og snöggur – stuttar 4,9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/ klst. Fyrir fjórhjóladrifinn bíl með 370 hestafla V6 vél er sá tími kannski ekki eins magnaður og í fyrstu mætti halda. Átta þrepa sjálfskiptingin er sæmileg í besta falli og nær aldrei almennilega að halda í við aflið frá vélinni með heldur seinum skiptingum. Sömuleiðis mátti búast við betri hemlun frá þessum annars glæsilegu, rándýru 18“ Brembo bremsudiskum að framan og aftan með rauðu klossana. Við krefjandi akstur á Kvartmílubrautinni passaði hemlunargetan ekki

40

við sterka hröðun bílsins og þurfti því að hemla talsvert fyrr en búist var við. Þó var tilfinningin og virknin í gegnum bremsupedalann ansi línuleg og góð. Í gegnum beygjurnar á almennum vegum var bíllinn þýður og hélt veltingi í minna lagi. Hefðbundin MacPherson-framfjöðrun og fimm arma afturfjöðrun stóðu plikt sína með rafstýrða, stillanlega dempara. Við meiri átök á brautinni fór undirstýring að láta á sér kræla sem breyttist í yfirstýringu við snöggar hraða- og stefnubreytingar. Alla þessa annmarka má rekja til eins sökudólgs, sem jafnframt er höfuðóvinur líflegra aksturseiginleika, skammarlegrar yfirvigtar. Með eiginþyngd upp á heil 1.896 kg er lítil furða að vonbrigðin komi í ljós og breytir litlu hversu vel stillta fjöðrun og fínar bremsur bíllinn hefur. Samanborið við fjórhjóladrifna lúxusbíla með svipaða

getu á borð við Mercedes Benz C400 4MATIC, E450 4MATIC og BMW 540i xDrive er Stinger þyngstur allra. Alla fyrrnefnda vankanta mætti fyrirgefa upp að vissu marki væri verðið samkeppnishæft og rúmlega það. Sú er því miður alls ekki raunin. Því er ekki hægt að neita að orðstír Kia merkisins er alls ekki sá sami og hjá þýsku lúxusbílaframleiðendunum og kemst fyrirtækið því ekki upp með að verðleggja merkið sjálft eins hátt. Grunnverð dísilbílsins upp á 8.390.777 kr og bensínbílsins upp á 10.490.777 kr eru gjörsamlega galin og sér í lagi í samanburði við keppinauta fáanlegra bifreiða á Íslandi. Ekki dugir að skýla sér á bak við mikið magn staðalbúnaðar og afl bensínbílsins, því að gæði búnaðar og yfirvigtin draga hann þar rakleiðis niður. Sérstaklega er þetta


sérkennileg verðlagning í ljósi þess að í sama húsi og Stingerinn er seldur, þ.e. hjá Bílaumboðinu Öskju, er hægt að kaupa Mercedes Benz á svipuðu verði. Meðfylgjandi er tafla yfir þá sportlegu lúxusbíla sem höfundur telur samanburðaræfa við Kia Stinger og eru verðin fengin frá verðlistum viðeigandi umboða þegar greinin er skrifuð, í október 2018. Kia Stinger er alls ekki slæmur bíll. Þvert á móti er hann skemmtilegt leiktæki og hagkvæmur fólksbíll sem undirritaður hafði beðið eftir með mikilli eftirvængu. Með þennan verðmiða missir hann því miður algjörlega marks. Því er bara að bíða og vonast eftir ódýrum, notuðum Stingerum eftir nokkur ár. Róbert Már Runólfsson

Gerð (dísil, fjórhjóladrif):

Afl [hö]:

Tog [Nm]:

Þyngd [kg]:

Lengd [mm]:

Breidd [mm]:

Verð [kr]:

% af verði KIA:

Kia Stinger GT-Line 2.2d AWD

200

440

1873

4830

1870

8.390.777

-

Alfa Romeo Giulia Q4 Veloce

210

450

1535

4643

1860

7.850.000

94%

Audi A4 2.0 TDI Quattro

190

400

1575

4726

1842

7.450.000

89%

Audi A4 3.0 TDI Quattro

272

600

1620

4726

1842

8.690.000

104%

BMW 520d xDrive

190

400

1620

4936

1868

9.050.000

104%

BMW 530d xDrive

265

620

1620

4936

1868

10.490.000

121%

Mercedes Benz C300 d 4MATIC

245

500

1585

4686

1810

8.020.000

92%

Mercedes Benz E220 d 4MATIC

194

400

1660

4923

1852

7.600.000

87%

Mercedes Benz E400 d 4MATIC

340

700

1770

4923

1852

9.600.000

114%

Volvo S90 D5 R-Design AWD

235

480

1904

4963

1879

7.990.000

95%

Kia Stinger GT 3.3 AWD

370

510

1896

4830

1870

10.490.777

-

BMW 540i xDrive

340

450

1823

4943

1868

11.690.000

111%

Mercedes Benz C400 4MATIC

333

480

1570

4686

1810

9.370.000

89%

Mercedes - AMG C43 4MATIC

367

520

1615

4699

1810

11.930.000

114%

Mercedes Benz E450 4MATIC

367

500

1745

4923

1852

11.050.000

105%

Gerð (bensín, fjórhjóladrif):

Kia Stinger GT Aflrás: 3,3 lítra sex strokka bensínvél með tveimur forþjöppum og 8 þrepa sjálfskiptingu Afköst: 370 hestöfl / 510 Nm Verð: 10.690.777 kr. Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 10,6 l/100 km (blandaður akstur) Eldsneytisnotkun (raunakstur): 14,3 l/100 km (blandaður akstur) Losun CO2: 244 g/km • Afl • Hagkvæmni innra byrðis • Magn staðalbúnaðar • Hátt verð • Mikil þyngd • Gervileg og gagnslaus stílbrigði ytra byrðis

41


BÍLAPRÓFUN FÍB Tæknimál

Á annað hundrað hleðslustöðvar nú þegar tengdar við kerfi Ísorku „Ég fékk hugmynd 2014 sem sneri einfaldlega að því af hverju getur ekki hver sem er boðið hleðslu eða selt rafmagn. Út frá þessari hugmynd fór ég að vinna að snjalllausnum, greiðslumiðlunum og tengingu við hraðhleðslustöðvar þannig að sem flestir gætu tekið þátt í innviðaruppbyggingu fyrir rafbíla. Þegar ég lít til baka finnst mér þetta hafa gengið vonum framar. Í upphafi, þegar við fórum að vinna að þessu, skildi okkur enginn. Í dag er fólk að átta sig á þessu og sér hve snjallvæðingin er mikilvæg og að möguleiki sé á greiðslumiðlun og öðru svo að innviðirnir geti borið sig. Við getum ekki endalaust sett upp innviði með almannafé, við þurfum að geta notað þá kosti að fólk greiði fyrir þá þjónustu sem það sækir,“ segir Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku. Sigurður segir fyrirtækið vaxa jafnt og þétt. Nýverið náðist viss áfangi þegar hundraðasta hleðslustöðin 42

var tengd við kerfi fyrirtækisins. Núna eru því yfir hundrað hleðslustöðvar í beinni tengingu við kerfið. Þetta eru hleðslustöðvar þar sem almenningur getur sett í samband og sumar stöðvar eru með greiðslumiðlun og viðskiptavinurinn greiðir fyrir notkun. Aðrar hleðslustöðvar eru fyrir fyrirtæki þar sem starfsmenn og aðrir geta hlaðið bílana sína. Það vilja ekki allir að hleðslustöðvarnar sínar séu aðgengilegar öllum. Ísorka þjónustar mörg fyrirtæki í dag og má í því sambandi nefna Reykjavíkurborg, Strætó, Orkustofnun og við verslunarmiðstöðvar. Orkubú Vestfjarða er með gjaldtöku á hleðslustöðvum sínum og er þeim miðlað um lausnir Ísorku. Ísorka vinnur að snjalllausnum og greiðslumiðlun Ísorka vinnur að snjalllausnum og greiðslumiðlun þannig að viðskiptavinurinn getur nýtt sér þjónustuna til að versla hleðslu hjá mörgum aðilum

um síma, hleðslulykil, smáforrit og vafra. Ísorka býður upp á alla möguleika þannig að rafbílaeigandi getur átt viðskipti við Ísorku til þess eins að taka hraðhleðslu hjá Olís eða Orkubúi Vestfjarða, svo að nefndir séu einhverjir aðilarsem nýta sér þjónustuna. Einstaklingar í sérbýli og fjölbýlishúsum geta líka keypt heimahleðslustöðvar, uppsetningu og hleðslukapla. Fyrirtæki geta nýtt sér þjónustu Ísorku til uppsetningar á hleðslustöðum. Í raun geta allir verið með. Hvað ber framtíðin í skauti sér í þessum efnum? „Ég sé fyrir mér að þetta eigi eftir að gerast hraðar en við höldum. Ég spái því að við verðum komin mjög langt eftir 10 ár, einfaldlega af því að engin fyrirstaða er og okkur vantar bara fleiri bíla. Raforkukerfið er ágætlega búið undir þetta, hlutirnir eiga eftir að gerast hratt og sérstaklega á snjallvæðingin eftir að leika stórt hlutverk,“ segir Sigurður.


- Eru allir innviðir tilbúnir tilbúnir í rafbílavæðinguna að þínu mati? „,Að mínu viti erum við tilbúin að takast á við þetta verkefni. Raforkuframleiðslan er í stakk búin og sömuleiðis dreifikerfið. Ég held að þar komi snjallvæðingin svolítið á móti fjárfestingum í dreifikerfinu. Við trúum því að með snjallvæðingu og tengingu við hleðslustöðvar og álagsdreifingu um Netið þurfum ekki alveg að grafa eins marga kapla og við teljum okkur þurfa, einfaldlega af þeirri ástæðu að hægt er bjóða ódýrara rafmagn um nætur með snjallvæðingu eða að álagsdreifa hleðslustöðvum í hverfum og landshlutum. Það er í raunin hagkvæmasta leiðin áður en við förum að moka upp skurði og koma fyrir sverum köplum og annað slíkt,“ segir Sigurður. Almennt talað um rafbíla segir Sigurður að aukning verði mikil á næstu árum. Fólk er tilbúið í rafbílavæðingu og það sama verður sagt um fyrirtæki en mörg þeirra sjá þetta sem raunverulegan kost í dag. Bílaleigur eiga eftir að bjóða í

síauknum mæli upp á rafbíla og það gerist fyrr en við ætlum. Sigurður sagði að bílaumboðin væru mörg að vinna gott starf í því að fá fleiri rafbíla til landsins. Forréttindi að fá að vinna með þessa hugmynd „Fyrir mig eru það forréttindi að fá að vinna með þessa hugmynd sem ég fékk á sínum tíma. Það er allt spennandi í þessu umhverfi og orkuskipti eru mjög áhugaverð. Við höfðum góða reynslu en við fórum fyrst í orkuskipti í rafmagni þegar við Íslendingar innleiddum raforku hér á landi. Síðan fórum við í gegnum önnur orkuskipti þegar við innleiddum hitaveitu og núna erum við í raun að setja af stað þriðju orkuskiptin. Þetta kunnum við Íslendingar, orkan er næg en við þurfum að vera með sameiginleg markmið. Sama hvað fólki finnst um rafbíla, hvort þeir séu yfirhöfuð umhverfisvænir eða raunhæfur kostur, er staðan sú að bílaframleiðendur eru búnir að ákveða hvert þeir ætla. Á meðan fólk ætlar að eiga smábíl eða

fjölskyldubíl fyrir einkabíl er mjög líklegt að eftir 2 eða 3 ár muni flestir skoða þann kost að fá sér rafbíl með tengli, hvort sem það verður tvinnbíl með tengli eða hreinn rafbíll. Bílaframleiðendur allir eru búnir að gefa að þeir stefna í umhverfisvæna orkugjafa og þá þarf land fyrir sig að svara þeirri ákvörðun bílaframleiðandans og taka þátt. Að mínu mati er þegar búið að ákveða þetta fyrir okkur,“ segir Sigurður. Að mati Sigurðar er Ísland í kjöraðstæðum til að rafbílavæðast. Við Íslendingar búum við þau forréttindi að vera með lokað raforkukerfi, hér er gott að búa og við erum í eðli okkar umhverfisvæn og þar af leiðandi líður okkur vel að taka þátt í þessu. Sigurður segir að fólk sem er að leita sér að nýjum bíl skoðar umhverfisvæna bíla með opnum huga. Við horfum langt fram í tímann „Við hér í Ísorku erum komnir einna lengst þegar kemur að snjallvæðingunni, þarfa- og álagsdreifingu. Við erum búin að hafa fjögur ár í að skoða hvernig þetta er gert og hvað hentar, þannig að við erum búnir með heimavinnuna. Við lærum smám saman eitthvað nýtt en erum auðvitað ágætlega færir og vel í stakk búnir til að leysa þau vandamál sem koma upp, hvort sem það er heima fyrir, í fjölbýlishúsi, á vinnustað eða almennum hleðslustöðvum. Við erum í góðu samstarfi við stór fyrirtæk í Finnlandi og á Spáni og hefur það komið sér afar vel fyrir okkur. Við erum ekki að finna upp hjólið og heldur er ekki í raunin að fara íslensku leiðina og gera eitthvað sérstakt fyrir Ísland. Við erum að elta það sem er að gerast erlendis en á sama tíma náum við forskoti á þessum markaði. Við erum bæði að læra af samstarfsaðilum okkar og þeir af okkur. Ég er mjög bjartsýnn á framtíðina og verkefnin eru allsstaðar. Við hér hjá Ísorku erum að horfa langt fram í tímann,“ segir Sigurður Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ísorku, í viðtali við FÍB-blaðið. 43


Reynsluakstur: Range Rover Velar

R

ange Rover Velar er nýjasta viðbótin í ört vaxandi flóru Land Rover bifreiða. Velar er fimm sæta lúxusjeppi sem smellir sér þægilega inn í stærðarflokk á milli Evoque og Sport. Sterkur ættarsvipur er milli allra Range Rover gerða (og í raun allra afurða Land Rover) og samsvarar Velar sér því með flórunni og rúmlega það, því að hann er hreinlega gullfallegur. Kom það undirrituðum skemmtilega á óvart þar sem eftirlætisjeppar hans eru hannaðir með reglustikum og vinklum, líkt og Mercedes G-vagninn, Jeep Wrangler og Land Rover Defender. Hönnunin á Velar er hreinlega svo fáguð og grípandi að höfundi þykir þetta fallegasti jeppinn á markaðnum í dag. Reynsluakstursbíllinn var í HSE D240 útfærslu, þ.e. með 240 hestafla fjögurra strokka dísilvél með forþjöppu og átta þrepa sjálfskiptingu. Að innan var rýmið löðrandi í leðri, tvílitað í svörtu og brúnu með hvítan saum og burstað ál á hurðarhúnum, miðjustokki og mælaborði. Nú þegar svo gott sem allir bílar eru komnir með snertiskjá varð Land Rover að stíga næsta skref og er því Velar útbúinn tveimur snertiskjám. Sá efri stýrir afþreyingarkerfinu,

44

leiðsögukerfi, myndavélum og síma á meðan sá neðri stýrir miðstöð, sætishita og -kælingu, baknuddi og akstursstillingum. Svipað og þegar fyrstu snertiskjáirnir litu dagsins ljós í bílum, þá tekur dágóðan tíma að venjast tveimur. Margar stillingar og undirstillingar eru í boði og tekur óratíma að venjast þeim. En undir lok þriggja daga reynsluaksturs reyndist það ögneinfaldara.

aðstæður. Ákveðinn minimalismi einkennir stjórntækin og hafa sumir takkar, líkt og takkarnir í stýrinu, fleiri en eina virkni. T.a.m. ef þrýst er á skrunhjólið sem stýrir miðstöðinni breytist virknin í hitastillingu fyrir sætin. Þá má einnig skipta um akstursstillingar með sama hjóli.

Mikill kostur er að miðstöð og útvarpi er hægt að stýra með eiginlegum tökkum og skrunhjólum sem gerir það að verkum að ekki er þörf á Að innan var rýmið löðrandi í leðri, tvílitað í svörtu og brúnu með hvítan saum að taka augun af og burstað ál á hurðarhúnum, miðjustokki og mælaborði. veginum þegar fikta þarf í algengustu stillingunum. Þetta gerir það að verkum að fáir sem engir eiginlegir takkar eru í Mælaborðið er stafrænt mælaborði, nema þeir sem mest og er þar hægt að varpa upp þörf er á. Þá eru hurðarhúnar að leiðsögukerfinu ásamt ýmsum utanverðu rafdrifnir og falla slétt öðrum upplýsingum, líkt og sjá má upp að hurðum meðan ekið er, ekki á meðfylgjandi mynd, sem stýra ósvipað sem þekkist í Tesla-bílum. má með tökkum á stýrinu. Þessir takkar eru sérlega fallega hannaðir Þægindin eru í fyrirrúmi og auðvelt og skipta um hlutverk (og útlit) er að láta bílinn nostra við sig með við mismunandi hituðu og loftkældu nuddsætunum, hitanum í stýrinu, akreinaaðstoðina í gangi og 825 vatta Meridian hljóðkerfið syngjandi í gegnum alla sína 17 hátalara. Að auki er plássið bara alveg eins og v i ð


má búast í bíl sem er á milli Range Rover Sport og Evoque í stærð. Farangursrýmið rúmar 673 lítra þar til aftursætin eru felld niður, þá vex rýmið upp í 1.731 lítra. Fótapláss í aftursæti var nægt fyrir 182 cm blaðamann með ökumannssætið í hans stöðu og var viðunandi axlarrými fyrir þrjá slíka hlið við hlið. Aksturinn er tilþrifalítill en umfram allt þægilegur þótt 240 hestafla og 500 Newton metra dísilvélinni takist að toga bílinn úr kyrrstöðu í hundraðið á 7,4 sekúndum, sem verður að teljast vel viðunandi fyrir flykkið sem vegur tæp 2 tonn. En tiltölulega lítið var látið reyna á hraða og snerpu bílsins – stemningin kallaði fremur á afslöppun. Með mjúka fjöðrun sem þessa var veltingur í beygjum að sjálfsögðu talsverður án þess þó að öryggiskenndinni yrði á einhvern hátt ógnað. Til eru sportjeppar í svipuðum stærðarog verðflokki sem fá mann til að standa á öndinni þegar kemur að gripi í háhraðabeygjum en Range Rover Velar er ekki einn af þeim. Á hinn bóginn eru fáir lúxusjeppar í þessum flokki sem eiga roð í Velar þegar kemur að torfæruakstri. Með veghæð allt að 250 mm á loftpúðafjöðrun og hámarksvaðdýpi upp á 650 mm má auðveldlega segja

að Velar býr yfir hæfileikum sem hann mun sennilega aldrei þurfa að láta að reyna á í höndum kaupenda en er gott að eiga í pokahorninu þegar bílablaðamenn þyrstir í torfæruakstur og vitleysu. Hægt er að læsa miðjudrifinu í Terrain Response 2 kerfinu, eins og það er kallað, auk þess sem sjálfvirk læsing er á afturdrifi. Þar má einnig velja ýmsar aksturstillingar sem sérsniðnar eru að malbiki, sandi, snjó, drullu og fleiri óþverra en nóg er að skilja stillinguna bara eftir á Auto og leyfa tölvunni að velja stillingu hverju sinni. Með þessa háu veghæð og snjöllu driflausnir er Velar ansi lipur og skemmtilegur í ófærum, aðeins aftrað af risavöxnu 21“ álfelgum. Nóg er sagt um Velar í bili þrátt fyrir að nokkrar blaðsíður í viðbót þyrfti til að útskýra allan staðalog aukabúnað sem í boði er, en sannleikurinn er sá að litlum tilgangi yrði þjónað með því. Sama hversu dýr eða ódýr bíllinn kann að þykja eða hversu skuggalegar áreiðanleikasögur eldri tíma kunna að fylgja munu kaupendur áfram flykkjast að og kaupa hvern þann bíl sem ber Range Rover merkið. Í þessu tilfelli er það vel þess virði. Róbert Már Runólfsson

Fótapláss í aftursæti var nægt fyrir 182 cm blaðamann með ökumannssæti í stöðu hans og viðunandi axlarrými fyrir þrjá slíka hlið við hlið.

Mælaborðið er stafrænt og er þar hægt að varpa upp

leiðsögukerfinu ásamt ýmsum öðrum upplýsingum

Range Rover Velar HSE D240 Aflrás: 2,0 lítra fjögurra strokka díselvél með forþjöppu og 8 þrepa sjálfskiptingu Afköst: 240 hestöfl / 500 Nm Verð: Frá 13.790.000 kr. (10.390.000 fyrir Velar S D180) Eldsneytisnotkun (skv. framleið.): 5,4 l/100 km (blandaður akstur) Eldsneytisnotkun (raunakstur): 7,9 l/100 km (blandaður akstur) Losun CO2: 154 g/km • Útlitshönnun • Innrétting • Torfærugeta • Lúxustilfinning

Hönnunin á Velar er hreinlega svo fáguð og grípandi að hreint út sagt þykir höfundi þetta fallegasti jeppinn á markaðnum í dag.

• Tveir flóknir snertiskjáir 45


Kynningarakstur: Jaguar I-Pace

Í

lok septembermánaðar bauð Jaguar – Land Rover á Íslandi blaðmönnum í nokkuð sérstaka kynningu. Tilefnið var stuttur reynsluakstur á Jaguar I-Pace, rafdrifnum lúxusjeppling sem beðið hefur verið með talsverðri eftirvæntingu og þegar verið hlaðinn lofi erlendra bílablaðamanna. Bíllinn, sem einkum er att kappi við Tesla Model X, er frumraun Jaguar í rafbílaöldunni og, ef marka má sögusagnir síðustu missera, gæti framleiðandinn alfarið breytt sér í rafbílaframleiðanda á næstu árum og hætt þannig framleiðslu brunahreyfilsbíla. Fjórar prótótýpur á lokastigi voru fengnar sérstaklega til landsins fyrir þessa kynningu en eiginleg forkynning fyrir almenning fer fram í byrjun nóvember. Fyrstu bílarnir verða þó ekki fáanlegir hér á landi fyrr en í lok febrúar á næsta ári en slík er eftirvæntingin að nú þegar eru nokkur eintök seld. Verð hafa ekki enn verið kunngerð en búast má að þeir kosti frá um 9.000.000 kr. til um 12.000.000 kr. Með bílunum í för var Reynald Roger, titlaður „General Manager – Electric Vehicles – Europe“, sem fræddi mannskapinn um eiginleika og getu bílsins. Rafkisinn umræddi kemur 46

útbúinn 90 kílóvattstunda rafhlöðu sem samanstendur af 432 pokasellum (e. Pouch cells) sem liggja í gólfi bílsins. Áætlað drægi er um 470 km skv. hinum nýja WLTP (e. Worldwide harmonized Light vehicles Test Procedure) auk þess má ná 80% hleðslu á einungis 40 mínútum í hraðhleðslu. 200 hestafla rafmótor er að finna á hvorum öxli og skila þeir samanlagt 400 hestöflum og 696 Nm af togi. Þar sem þeir eru rafmótorar skila þeir að sjálfsögðu öllu togi samstundis frá 0 snúningum. Samkvæmt Reynald vegur hvor mótor með stökum gír alls 78 kg. Með hagkvæmri og snjallri hönnun og framúrskarandi efnivið skilar kerfið (mótorar með rafhlöðum) fáheyrðri 95% aflnýtni. Til samanburðar er nýtni dísilvéla ekki nema í kringum 45% og bensínvéla aðeins um 30%. Með allt að því hlægilega 14 mm í veghæð og „Kammbakslögun“ (e. Kammback, Kamm tail) er erfitt að kalla I-Pace jeppa í landi þar sem Land Cruiser er fasti og öllum mönnum kunnugur. Í raun það eina sem mætti tengja I-Pace við alvöru jeppa er 2.133 kg eiginþyngd. Hins vegar má hækka loftpúðafjöðrunina um allt að 50 mm til að komast leiða sinna þegar vegirnir fara versnandi eða þarf að vaða. Vegna

snjallrar pökkunar á rafhlöðum og mótorum og skorts á loftinntökum sem annars gætu leitt vatn inn í brunahólf er hámarks vaðdýpi afar virðulegir 500 mm. Í akstri fóru hlutirnir allir að smella saman, enda er upptakið gríðarlegt og akstureiginleikar líflegir. Lágur þyngdarpunktur, (vegna rafhlaðna í gólfi fyrst og fremst) og (næstum) 50:50 þyngdardreifing í samvinnu við tvöfaldar klofspyrnur úr F-Type sportbílnum að framanverðu og fjölarmafjöðrun úr F-Pace sportjeppanum að aftanverðu, skilar sér í hærri veltimiðju og veltistífni að aftan sem dregur þannig úr undirstýringu og eykur stýrisnæmni. Til að einfalda málin: Jaguar I-Pace er fantaskemmtilegur akstursbíll. Aksturinn var hljóðlátur, þökk sé drifrásinni og ekki síst lágum dragstuðli upp á 0,2. Loftpúðafjöðrunin og há eiginþyngd straujuðu loks ójöfnur vegarins af kostgæfni og voru þægindin vel viðunandi. Jaguar I-Pace er spennandi viðbót í rafbílaflóruna og drífur áfram mikilvæga framþróun iðnaðarins. Róbert Már Runólfsson


Allt sem þú þarft að vita um olíu og olíuskipti

V

élarolían er álíka mikilvæg fyrir bílinn þinn eins og blóðið er fyrir líkama þinn. Vanræksla eða mistök við olíuskipti leiða auðveldlega til skemmda á bílvélinni og mjög dýrra viðgerða. Í þessari grein er varpað ljósi á leyndardóma olíunnar og upplýst um þá tíu þætti sem þú þarft að vita um um þessi mál. Tíundaðar eru algengustu spurningarnar um vélarolíu og olíuskipti og þeim svarað.

Hér fyrir neðan höfum við tekið saman tíu atriði sem tengjast vélarolíu og olíuskiptum. Nokkru lengra fram í greininni má lesa um fimm helstu hlutverk vélarolíunnar og þær staðreyndir sem lesa má af olíukvarðanum. Að auki má lesa algengar spurningar um vélarolíuna og svör við þeim.

Hvenær skiptir þú síðast um olíu?

1) Skiptu um vélarolíu í samræmi við það sem framleiðandi bílsins mælir með. Notaðu þá gerð olíu og þann þykktarflokk, t.d. 5W/30, sem framleiðandi bílsins mælir með í handbók bílsins. 2) Vendu þig á að mæla olíuhæðina af og til, t.d. þegar þú þværð bílinn. 3) Láttu vélina ná fullum vinnsluhita áður en þú byrjar að láta hana vinna á fullum afköstum eða snúast á miklum snúningshraða. Það tekur all-nokkrar mínútur áður en olían er orðin nógu heit og nær að smjúga inn í alla þá króka og kima vélarinnar og smyrja allt það sem henni er ætlað. 4) Skiptu alls ekki sjaldnar um olíu en annað hvert ár, enda þótt tilteknum kílómetrafjölda sé ekki náð. Best er að skipta um olíu árlega. Best er að skipta á haustin. Þá er nýja olían tilbúin að mæta lækkandi hitastigi og vetrarkuldum. 5) Ekki reyna að spara með því að kaupa ódýra olíu. Góð vélarolía kostar sitt. Láttu engan fá þig til að trúa öðru. 6) Skiptu alltaf um olíusíu um leið og olían er endurnýjuð. Olíusía sem notuð er lengi mettast smám saman og stíflast að endingu. Ef hún stíflast opnast framhjáhlaupsventill en um leið fer óhrein og menguð olía út í legur og veldur skaða. 7) Farðu með spilliolíuna á næstu sorpeða endurvinnslustöð og/eða helltu henni í rétt söfnunarílát. Helltu henni ALDREI í niðurfallið heima eða út í göturæsi. 8) Skiptu oftar um olíu en handbókin mælir fyrir um ef þú ert ekki viss um ástand vélarinnar eða ef þú hefur lagt mikið á hana, t.d. með því að draga

Sennilega ert þú ekkert sérstaklega að missa svefn yfir þessari spurningu. En vélarolían er samt mikilvæg fyrir bílinn eins og blóðið í skrokki þínum er fyrir þig. En röng olía á vélinni flýtir því að hún slitnar, skemmist eða í versta falli bræðir úr sér og eyðileggst og allt getur þetta kostað mikið. Að endurbyggja vél kostar morð fjár. Þess vegna skaltu vita hvenær kemur að olíuskiptum. Þetta er mikilvægt með nýlegu bílana en það er líka og ekki síður mikilvægt með eldri bíla. Með þá eru eigendur oft ekkert sérstaklega að ómaka sig með þá á sérverkstæði (umboðsverkstæði) til að láta smyrja og þjónusta og heldur ekkert að halda reglu á því hvenær þetta er gert. En reglubundin olíuskipti eru mikilvæg fyrir alla bíla og fljótlega eftir olíuskipti þarf að fylgjast með vélinni og olíustöðunni. Það er vegna þess að í innviðum véla er gufa sem þéttist í dropa sem blandast olíunni. Þetta vatn og raki sem líka er í nýju olíunni gufar upp í langkeyrslu þegar vélin er keyrð á fullum vinnsluhita sem er 80-100 gráður. Einmitt það er mjög æskilegt og þegar það gerist lækkar olíustaðan lítilsháttar. En ef bílnum er mest ekið stuttar vegalengdir í einu nær vélin sjaldnast fullum vinnsluhita og rakinn nær ekki að gufa upp heldur safnast upp og myndar með tímanum olíu/sót-útfellingar í vélinni. Langkeyrslan er þannig lang hollasta notkunarmynstur bílsins auk þess sem þá nær rafgeymirinn því að hlaðast upp að fullu.

10 olíuþættir:

þunga vagna, verið í torfæruakstri eða ekið mikið stuttar vegalengdir og vélin aldrei náð að hitna að fullu í milli. 9) Slepptu öllum íblöndunar- og olíubætiefnum. Góð vélarolía inniheldur öll þau bætiefni sem þörf er á. 10)Hafirðu keypt notaðan bíl án tæmandi eða marktækra upplýsinga um viðhald hans og þjónustu skaltu um olíu á vélinni (og gírkassa, drifi) og síðan aftur um vélarolíu eftir 2-3 þús. km. Þá hreinsast væntanlega gamalt slamm og útfellingar út. Einnig er hægt að biðja um útskolun á vélinni fyrir olíuskipti. Mörg betri verkstæði búa yfir sérstökum vélbúnaði til slíks, sem og kunnáttu. Með þessháttar útskolun er vélin hreinsuð að innan með sérstökum hreinsiolíum og á eftir heldur nýja vélarolían lengi tærum gulbrúnum lit sínum. Olíukvarðinn mikilvægt

segir

margt

og

Þegar þú dregur upp olíukvarðann úr bílvélinni skaltu þurrka af honum með tusku eða pappírsþurrku, stinga honum aftur niður og draga svo upp aftur. Þá sérðu merkin á honum um hámarksog lágmarks olíumagn og hvar olían stendur á kvarðanum. Vonandi er olíustaðan eins og vera ber – ekki fyrir ofan hámarkið og heldur ekki undir, heldur einhversstaðar í milli. Ef olíustaðan er við lágmarkið eða undir því, verður að bæta olíu á vélina. Hversu miklu þarf að bæta á getur hins vegar verið óljóst, enda eru vélar mismunandi í þessu. En ef staðan er við lágmarkið er best að byrja með að bæta svona hálfum lítra á, bíða smá og mæla síðan aftur með kvarðanum. Þótt olíustaðan skríði rétt yfir hámarksstöðuna þá gerir það svosem lítið til. Í þessu er nefnilega ,,ekkert akkúrat, heldur einungis hérumbil,” eins og ágætur bifvélavirki orðaði það eitt sinn.

47


Liturinn og staðan á vélarolíunni segir margt um vélina. Eftirfarandi er það helsta:

BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR FRÆÐSLA

Tær gulleit = nýbúið að skipta um olíu. Til hamingju með það! Svört olía = sót og önnur brunaóhreinindi hafa blandast olíunni og leyst upp í henni. Það er eðlilegt og ekki ástæða til að óttast. Ljósbrún olía = Vatn hefur blandast olíunni – vont mál! Gæti í besta falli verið vatnsgufa úr andrúmsloftinu sem hefur þést. En trúlegra er þó að kælivatn hafi komist í olíuna. Ef kælivökvinn hefur minnkað án þess að nokkur leki finnist, er það skýr vísbending um bilaða heddpakningu eða sprungu í heddi og þá er aldeilis tími kominn til að hafa samband við verkstæði.

Of lág olíustaða = Bættu olíu á vélina, ca hálfum lítra í einu. Bíllinn þarf helst að hafa staðið í svona 10 mín. áður en olían er mæld vegna þess að það tekur smá stund fyrir olíuna uppi í heddinu í kring um knastásinn og ventlana að renna niður í olíupönnuna að nýju. (Olíustaðan í olíupönnunni er mæld). Olíustaðan hefur hækkað = Slæmt mál. Getur gerst vegna þess að óbrunnið bensín þrykkist niður með stimplunum og niður í olíuna ef stimpilhringir eru orðnir mjög slitnir. En í nýlegum bílum er þessi ástæða næsta ólíkleg. Nærtækara er að ætla að þú eða smurstöðin hafi einfaldlega hellt of mikilli olíu á vélina. Mikil yfirfylling

getur í versta falli leitt til þess að sveifarásþétti gefa sig. Fimmfalt hlutverk vélarolíunnar Að olían smyrji vélina vita víst flestir. En mikilvægt hlutverk hennar er margþættara – fimmfalt margþættara má segja: 1) Smyr vélina (þú vissir það víst fyrir?). 2) Kælir vélina. Mjög mikilvægt hlutverk. 3) Hreinsar vélina. Leysir upp útfellingar og óhreinindi. 4) Ryðver vélina. Mikilvægt þegar bíllinn er ekki í notkun. 5) Þéttir vélina. Styrkir pakkningar og ásþétti. Nánari upplýsingar á www.fib.is Samantekt: Stefán Ásgrímsson

Grábrún froða á olíukvarðanum og á innanverðu olíulokinu á vélinni = loftraki sem hefur þést og síðan blandast olíunni. Þetta er staðfesting þess að bílnum er langoftast ekið stuttar vegalengdir. Vélin og olían ná aldrei að hitna til fulls og sjóða vatnið í burtu. Þetta er yfirleitt ekki merki um yfirvofandi stórslys en ágætt er að fara af og til lengri vegalengdir en bara milli húsa og þá hverfa þessi einkenni venjulega og olían fær sinn vejulega dökka eða svarta lit.

Endurmenntun atvinnubílstjóra

U

m þessar mundir situr fjöldi atvinnubílstjóra úr flutninga- og hópflutningageiranum endurmenntunarnámskeið. Á námskeiðunum eru rifjuð upp mikilvæg atriði sem snerta störf þessara stétta svo sem reglur um aksturs- og hvíldartíma, vistakstur, lagaumhverfi greinarinnar, umferðaröryggi og bíltækni en þessar námsgreinar er skylda að taka. Þá sitja nemendur auk þess tvö valnámskeið, alls fimm vinnudaga eða 35 klst á fimm ára tímabili. Með því viðhalda þeir atvinnuréttindum sínum bæði hér á landi sem og á öllu EES-svæðinu. Hér er semsagt á ferðinni innleiðing EESreglna. Þeir sem ekki ætla að sækja námskeiðin af einhverjum ástæðum geta endurnýjað ökuskírteini sín en 48

þá án þess að hafa leyfi til aksturs í atvinnuskyni. Forsagan Evrópusambandið samþykkti árið 2003 reglur sem tóku gildi á öllu Evrópska efnahagssvæðinu (tilskipun 2003/59/ EB) þar sem samræmt var innan alls svæðisins hvernig standa skuli að grunnmenntun og endurmenntun atvinnu-bílstjóra, o.fl. Áður hafði slíkt verið með mismunandi hætti á svæðinu og hér á landi var grunnmenntun í lagi en endurmenntun ekki krafa. Skilgreint var í tilskipuninni hver markhópurinn skyldi vera, ákveðinn lágmarkstími þjálfunar og hversu

Guðni Sveinn Theodórsson, ökukennari og skólastjóri Ökulands hefur haldið endurmenntunarnámskeið fyrir stóran hóp ökumanna.


oft tilteknir atvinnubílstjórar skyldu kallaðir inn til endurmenntunar. Aðlögunarfrestur var ákveðinn og einnig hvenær þjálfun skyldi hefjast og voru viðmiðunarárin 2009 og 2010 eftir flokkum ökutækja. Endurmenntunarnámskeiðinframkvæmd Námskeiðin, sem nú hafa verið gerð að skyldu, skulu samtals vera fimm að tölu og alls 35 klukkustunda löng. Hugmyndafræðin er sú að nóg sé fyrir atvinnubílstjóra að taka eitt námskeið á ári hafi hann þannig á fimm árum uppfyllt 35 stunda kröfuna. Þó er sá galli á gjöf Njarðar hér á landi að gengið er út frá því að allir þeir sem luku prófi til aukinna ökuréttinda fyrir 10. september 2013 skuli fimm árum síðar, þ.e. 10. september á þessu ári, hafa lokið þessum fimm námskeiðum, samtals 35 kennslustundum, til að geta viðhaldið atvinnuréttindum sínum. Námskráin, sem áður var minnst á, var gefin út í júní 2015 í kjölfar fyrrnefndrar lagabreytingar þannig að aðeins eru rétt rösk þrjú ár frá útgáfu hennar. Fyrstu starfsleyfi Samgöngustofu til ökuskóla til að kenna þessi námskeið voru gefin út vorið 2016 og þá gátu atvinnubifreiðastjórar hafist handa við endurmenntunina. Námskeiðahaldið hófst þó almennt ekki strax og tók það nokkurn tíma fyrir ökuskóla að fá hjólin til að snúast. Því má segja að aðeins rösk tvö ár hafi verið ætluð til að gefa þeim, sem lokið höfðu auknum ökuréttindum fyrir 10. september 2013 og vinna við atvinnuakstur tiltekinna ökutækja, frest til að ljúka endurmenntun sinni. Kjartan Þórðarson, sérfræðingur ökunáms hjá Samgöngustofu, hefur ásamta félögum sínum borið hita og þunga af innleiðingu námskeiðanna. Meirihluti nemenda lýkur námi með full réttindi Kjartan sagði, aðspurður um stærð markhópsins sem ætlað er að sækja námskeiðin, að mjög erfitt væri að áætla fjöldann. Vitað er að um 600 fá vörubílaréttindi og um 700 hópbifreiðaréttindi á hverju ári. Meirihluti nemenda lýkur námi með öll

réttindi þ.e. leigu-, vöru- og hópbifreiða, en þeir sem leggja fyrir sig akstur í atvinnuskyni á fólksbifreið þurfa ekki að sækja endurmenntunarnámskeið. Í dag eru um 4.400 atvinnubílstjórar byrjaðir eða búnir með fyrstu endurmenntun sína. Margir bílstjórar, sem eru ekki þessa stundina í atvinnuakstri, hafa tekið þá ákvörðun að bíða með að endurnýja leyfin enda er alltaf unnt að endurvekja réttindin með því að klára endurmenntunina. Þeir sem lokið hafa námskeiðunum eru skráðir í gagnagrunn Ask en hann geymir upplýsingar um öll endurmenntunarnámskeið sem bílstjórar hafa tekið. Einstaklingar geta skráð sig inn í Ask með rafrænum skilríkjum til að sjá hvernig námskeiðamál þeirra standa. Slóðin er askur.samgongustofa. is. Kjartan var spurður hverjir aðrir myndu nota þennan gagnagrunn og sagði hann að sýslumenn muni hafa aðgang að Aski til að sjá hvort umsækjandi um endurnýjun atvinnuréttinda sé búinn með endurmenntunina. Einnig er gert ráð fyrir að lögregla hafi aðgang að Aski og geti þannig haldið uppi eftirliti með atvinnubílstjórum. Í framtíðinni mun sýslumaður kanna stöðu allra þeirra sem endurnýja atvinnuréttindi og athuga hvort endurmenntunarkröfu hafi verið fullnægt á undangengnum fimm árum. Kjartan var beðinn að segja frá því hvernig gengið hefði að koma þessum námskeiðum af stað og viðhalda í þeim gæðum sem krafist er skv. tilskipun ESB frá 2003. Hann sagði að innleiðing hér á landi hefði dregist um of. Önnur EES-ríki hefðu innleitt kröfurnar á réttum tíma þannig að allir atvinnubílstjórar tóku fyrstu endurmenntun sína fyrir 10. september 2016. Öll ríki innan EES hafa náð því markmiði en Íslendingar eru enn að keppast við að ná því nú í september 2018, tveimur árum á eftir öðrum EESríkjum. Þar sem EES-svæðið er eitt atvinnusvæði fyrir atvinnubílstjóra er mjög mikilvægt að íslenskir bílstjórar hafi þessi atvinnuréttindamál á hreinu til að verja markaðinn hér fyrir ómenntuðum bílstjórum frá útlöndum.

Kjartan segir, aðspurður um hvort reikna megi með að margir sem ekki hafa lokið námskeiðunum þegar fresturinn rennur út 10. september n.k., verði enn við störf segir hann að ekki sé ljóst hvernig eftirfylgnin verði. Ljóst væri að sá sem ekki hafi fullnægt endurmenntunarkröfunni verði þ á ekki löglegur í atvinnuakstri. Spurning er þá hvernig tryggingarfélög meta réttindi bílstjóra ef kemur að tjónum og bótum. Sveinn Ingi Lýðsson er varðstjóri í lögreglunni á Suðurlandi og yfirmaður þeirrar deildar lögreglu sem hefur með eftirlit með akstri leyfisskyldra ökutækja sem notuð eru í atvinnuskyni, ásamt því að vera ökukennari til margra ára. Hann sagðist telja að endurmenntun atvinnubílstjóra væri mjög af hinu góða og löngu tímabær. Í starfi sínu kveðst hann verða áþreifanlega var við þörf á endurmenntun, margir hefðu aflað sér aukinna ökuréttinda fyrir mörgum áratugum og starfað síðan í faginu en mjög margt í starfi og umhverfi atvinnubílstjóra hafi breyst mikið á þeim tíma. Því sé þessi endurmenntun kærkomin fyrir þá sem vilja fylgjast með breytingum í laga- og reglugerðum sem snúa að starfinu, tækninýjungum og svo að ekki sé talað um upprifjun á til dæmis skyndihjálp oog fleiri þáttum. Atvinnubílstjórar hafi almennt mikinn starfsmetnað Sveinn Ingi hefur verið ötull við að fræða bæði atvinnubílstjóra og stjórnendur fyrirtækja um þennan nýja veruleika í endurmenntun atvinnubílstjóra.

Sveinn Ingi Lýðsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi er manna fróðastur um þær reglur sem gilda um akstur stórra ökutækja og hefur miðlað fræðslu til margra.

49


Hann segir að atvinnubílstjórar hafi almennt mikinn starfsmetnað og ríka ábyrgðartilfinningu fyrir mikilvægi starfa sinna en framboð á endurmenntum hafi verið frekar takmarkað. Fyrirtæki í greininni hafi þó sum hver haldið úti reglulegri endurmenntun fyrir eigin starfsmenn. Á námskeiðunum sem nú eru haldin fari einnig fram góð og nauðsynleg fagleg umræða þar sem saman koma ökumenn sumir eru með áratuga reynslu og hafa oft miklu að miðla. Slík námskeið auka einnig fagvitund stéttarinnar og eru hvatning og viðurkenning.

leiðbeinendur í samstarf við fræðsluna innan fyrirtækisins.

Vilborg Magnúsdóttir er fræðsluog forvarnarfulltrúi á mannauðs- og gæðasviði Kynnisferða ehf.

Guðni Sveinn Theódórsson, ökukennari og eigandi ökuskólans Ökuland, hefur boðið upp á endurmenntunarnámskeið víða um land og ekki síst í framsæknum fyrirtækjum sem bjóða starfsmönnum sínum upp á þau.

Fyrirtækið hafi ákveðið að sýna frumkvæði Vilborg hefur stýrt námskeiðum fyrir starfsmenn fyrirtækisins og segir að fyrirtækið hafi ákveðið að sýna frumkvæði í fræðslumálum og sóst eftir starfsleyfi til að kenna endurmenntunina. Bílstjórar Kynnisferða eru að hennar sögn vanir reglulegum fræðslufundum og því reyndist tilvalið fyrir fyrirtækið að fá að sjá sjálft um námskeiðin. Sótt var um leyfi til Samgöngustofu og hafi það fengist. Síðan hafi tekið við vinna við að setja upp námskeiðin og fá

Vilborg sagði það jákvætt að geta valið leiðbeinendur sjálf og verið í góðu samstarfi við þá. „Við teljum okkur hafa teflt fram einvala liði fyrirlesara enda er ekki hægt að bera annað á borð fyrir reynslumikla bílstjóra fyrirtækisins. Með þessu náðist enn meiri tengsl við bílstjórana og fyrirtækið geti þá einnig sett fram áherslur sínar þegar það á við.“ Alls hafi verið haldin um 15 námskeið að meðaltali fyrir hverja þessa 5 daga sem þarf að taka í endurmenntun.

Viðhorfið hefur einnig breyst til betri vegar Guðni var beðinn að lýsa því hvernig þátttakan væri á námskeiðunum og hvers konart viðhorf væru til þeirra. Hann sagði að þátttaka á námskeiðum hefði farið mjög rólega af stað þegar Ökuland fékk starfsleyfi til þeirra á vormánuðum 2016, fyrst allra aðila. Frá síðustu áramótum hafa bílstjórar verið duglegir að mæta alveg fram að sumarlokun. Viðhorf þeirra eru ekki alltaf

jákvæð en að námskeiðunum loknum eru þeir almennt mjög ánægðir með fræðsluna. Þetta kemur meðal annars fram í matsblöðum sem nemendur fylla út við námskeiðslok. Viðhorfið hefur einnig breyst til betri vegar eftir því sem fleiri ljúka námskeiðunum. Aðspurður um kostnað við að sækja námskeiðin og hvort þátttakendur settu hann fyrir sig, taldi Guðni svo ekki vera. Mörg fyrirtæki og verkalýðsfélög styrktu bílstjóra til þátttöku og þætti bílstjórunum deginum yfirleitt vel varið og teldu sig hafa mikið gagn af námskeiðunum. Höfundur: Eiríkur Hreinn Helgason fyrrverandi yfirlögregluþjónn og stjórnarmaður í FÍB, kennir á námskeiðum atvinnubifreiðastjóra Eftirmáli: Grein þessi er skrifuð í fyrstu viku septembermánaðar þótt hún birtist lesendum FIB-blaðsins ekki fyrr en nú um mánaðamót október/nóvember. Enn er verið að halda námskeið út um allt land til að gefa markhópnum sem á að hafa lokið þeim færi á að halda áfram að vinna sín störf. Lögreglan hefur heldur haldið að sér höndum en ljóst er að það styttist í að þeir sem ekki sitja námskeiðin, muni lenda í vandræðum að stunda atvinnuakstur sinn

SÉRFRÆÐIRÁÐGJÖF ER INNFALIN Í FÉLAGSAÐILD FÍB LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF Jóhann Fannar Guðjónsson, lögfræði-ráðgjafi FÍB er sérfróður um algengustu vandamál varðandi galla eða svik í bfreiða viðskiptum, ófullnægja við-gerðir og sakarskiptingu við tjónauppgjör. Jóhann Fannar hrigir í félags-menn á þriðjudögum og fimmtudögum. Gera má ráð fyrir því að hálftíma viðtal hjá almennum lögmanni kosti töluvert meira en félagsgjaldið í FÍB. Lögfræðingur FÍB veitir ráðgjöf en rekur ekki mál fyrir dómstólum. 50

TÆKNIRÁÐGJÖF Tæknimaður FÍB, veitir félagsmönnum aðstoð og ráðgjöf varðandi bifreiðatæknileg atriði, svo sem um viðgerðarkostnað, gæði viðgerða og varahluta, galla í nýjum bifreiðum o.fl. Í samvinnu við fyrir Bílgreinasambandið Stillanlegur hinar ýmsu stærðir sn(BGS) er tæknimaðurinn jallsíma.Með sniðmótsáttamaður fyrir mismunandi í ágreiningsmálum milli neytenda hleðslutæki. annarsÖrugg vegar og verkstæða og sogskál. innflytjenda innan BGS hins vegar. 360 gráðu snúningur. Létt að setja upp.


SHOW YOUR CARD SYC afsláttarklúbbur bílaklúbba!

Innanlands

Jóhannes Karlsson 250467-4999 018887

Félagsmenn FÍB hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbi í heimi. Show your Card! er landamæralaus afsláttarklúbbur bílaklúbba. Tugþúsundir staða út um allan heim sem gefa afslátt. Ef þú ætlar að leigja bíl í fríinu, kaupa hótelgistingu, fara í dýragarðinn, vatnagarðinn eða á söfn, kannaðu Show your Card! afsláttinn inni á fib.is áður en þú ferð og ferðakostnaðurinn minnkar. Mundu eftir FÍB félagsskírteininu það opnar þér aðgang.

10% 15%

Jarðböðin við Mývatn 20%

15%

20% FÍB - Show your Card afsláttur af aðgangi . Tveggja manna herbergi með handlaug kr. 9.900.-

www.hertz.is/fib

10-15%

Ný og aðgengilegri heimasíða

Hvalfjarðargöng kr. 700 Show Your Card

20%

Kannaðu málið inná fib.is

Miðarnir fást einungis á skrifstofu FÍB, Skúlagötu 19 SHOW YOUR CARD Sendum um land allt - s. 414-9999 SYC afsláttarklúbbur bílaklúbba!

Innanlands

Jóhannes Karlsson 250467-4999 018887

Félagsmenn FÍB hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbi í heimi. Show your Card! er landamæralaus afsláttarklúbbur bílaklúbba. Tugþúsundir staða út um allan heim sem gefa afslátt. Ef þú ætlar að leigja bíl í fríinu, kaupa hótelgistingu, fara í dýragarðinn, vatnagarðinn eða á söfn, kannaðu Show your Card! afsláttinn inni á fib.is áður en þú ferð og ferðakostnaðurinn minnkar. Mundu eftir FÍB félagsskírteininu það opnar þér aðgang.

10% 15%

15%

Jarðböðin við Mývatn 20%

15%

20% FÍB - Show your Card afsláttur af aðgangi . Tveggja manna herbergi með handlaug kr. 9.900.-

www.hertz.is/fib

10-15%

Hvalfjarðargöng kr. 700 20%

15%

Miðarnir fást einungis á skrifstofu FÍB, Skúlagötu 19 Sendum um land allt - s. 414-9999

Stillanlegur fyrir hinar ýmsu stærðir snjallsíma.Með sniðmót fyrir mismunandi hleðslutæki. Örugg sogskál. 360 gráðu snúningur. Létt að setja upp.

15%

15%

52

52

51


AFSLÁTTAR- OG ÞJÓNUSTUUPPLÝSINGAR

FÍB - ALLRA HAGUR

AFSLÁTTAR- OG ÞJÓNUSTUUPPLÝSINGAR

ÞJÓNUSTUBÓK 2018

ÞJÓNUSTUBÓK

2018

SAMSTARFSAÐILAR FÍB AFSLÆTTIR TIL FÉLAGSMANNA FRAMVÍSA BER FÉLAGSSKÍRTEINI ÞEGAR BEIÐNI UM ÞJÓNUSTU FER FRAM, AFSLÁTTUR GILDIR EKKI AF TILBOÐUM EÐA FÖSTUM VERÐUM FÍB AÐSTOÐ 5 112 112

1

FÍB AÐILD TRYGGIR ÞÉR AÐGANG AÐ ÖRYGGI OG SPARNAÐI fib.is

BL Sævarhöfða 2 Sími: 525-8000 10% afsláttur af vara- og aukahlutum www.bl.is

Bílabúð Benna Vagnhöfða 23 Sími: 590-2000 10% afsláttur af vara og aukahlutum www.benni.is

Askja Krókhálsi 11 Sími: 590-2100 10% afsláttur af varahlutum www.askja.is

Brimborg Bíldshöfða 6 og 8 Sími: 515-7000 10% afsláttur af varahlutum www.brimborg.is

Toyota Kauptúni Sími: 570-5070 10% afsláttur af varahlutum www.toyota.is

Bernhard Vatnagörðum 24-26 Sími: 520-1100 10% afsláttur af varahlutum www.bernhard.is

MotorMax Vatnagörðum 12 Sími: 545-4040 15% afsláttur af öllum vörum*

Suzuki bílar Sími: 568-5100 10% afsláttur af varahlutum www.suzuki.is

*gildir ekki með öðrum tilboðum eða afsláttumum

www.motormax.is

Ísorka Dugguvogur 4 Sími: 568-7666 10% afsláttur af hleðslustöðvum og hleðsluköplum www.isorka.is

Concepta Síðumúla 3 Sími: 537-7755 20% afsláttur af öllum baðinnréttingum www.cepta.is

HÆGT ER AÐ SKOÐA ALLA AFSLÆTTI TIL FÉLAGSMANNA INNÁ FIB.IS 52


Félagmenn! Mikið úrval ferðabóka og öryggisvara Skúlagata 19, Reykjavík og netverslun á fib.is

BARITO AKSTURSSÓLGLERAUGU Fullkomin polaroide sólgleraugu með UV-400 gleri, sem gefur betri sýn í bæði sterku sólarljósi og skýjuðu veðri. Glerið fangar útfjólubláu geislana og tekur skyggingar í burtu.Frábær gleraugu á frábæru verði. Hulstur og klútur fylgir með. Verð til félagsmanna

Varan fæst hjá FÍB að Skúlagötu 19 Opið frá kl. 8.15 - 16.30 virka daga. Póstsendum um land allt samdægurs.

kr. 5.748.-

Almennt verð kr. 7.185.-

VIÐVÖRUNARÞRÍHYRNINGUR VIÐVÖRUNARÞRÍHYRNINGUR

SNJALLSÍMASTANDUR SNJALLSÍMASTANDUR

Viðvörunarþríhyrningur Viðvörunarþríhyrningur ECE R27 vottaður ECE R27 vottaður Hentugt geymslubox. Hentugt geymslubox.

Stillanlegurfyrir fyrirhinar hinarýmsu ýmsustærðir stærðir Stillanlegur snjallsíma.Með sniðmót fyrir snjallsíma.Með sniðmót fyrir mismunandimismunandi hleðslutæki. hleðslutæki.Örugg sogskál. 360 snúningur. Létt að setja upp. Örugggráðu sogskál. Verð til félagsmanna 360 gráðu snúningur. kr. 4.448.Létt að setja upp.

Verð til félagsmanna

kr. 1.600.Verð til félagsmanna

Almennt verð kr. 2.000.-

kr. 2.256.-

Almennt verð kr. 5.560.-

Almennt verð kr. 2.820.-

Verð til félagsmanna

kr. 4.448.-

Almennt verð kr. 5.560.Hleðslutengi Kr. 2.608

Íslenskar gar Loftdæla leiðbeinin Bón Hard Wax 250ml Bónklútar rauðir Vaskaskinnslíki Kr. 5.288 Kr.1.112

Kr. 672

Kr. 787

Felguhreinsir

Plast & gúmmígel

Vaskaskinn

Tjaldbúðaskírteini

Kr.1.557

Kr.1.624

FÍB sjúkrataska í bílinn Kr.2.100

Sólgleraugu frá Eye Copenhagen

Yfir 120 titlar

Klassísk og tímalaus dönsk gæða hönnun. Gleraugun eru aðeins 32 gr. og eru mjög Til í svörtum og brúnum lit. - Vörn gegn glömpum 400 UV vörn og Rispuvörn - Margra laga gler

Felguhreinsir Kr. 1.557

Hard wax 500ml Kr. 1.492

Kr. 787

Kr. 1.500

FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS Kr. 5.880 SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FÍB VERSLUN FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS

4953


54


Aðalskoðun hf. Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði Sími 590 6900 www.adalskodun.is Skeifan 5 (hjá vínbúðinni) sími 590 6930 Grjóthálsi 10 (við vesturlandsveg) sími 590 6940 Skemmuvegur 6, Kópavogi sími 590 6935 www.adalskodun.is Frumherji hf. Hestshálsi 6-8, Reykjavík Skeifunni (Grensásvegi 7) Reykjavík Gylfaflöt 19, Grafarvogi, Dalvegi 22, Kópavogi Garðatorgi, Garðabæ, Sími 570 9090 frumherji.is Dalshraun, Hafnarfjörður, Sími 570 9217 Tékkland Borgartún 24, 105 Reykjavík Holtagarðar, Reykjavík s. 414-9914 Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður s. 414-9912 Dalsbaut 1, Akureyri sími. 414-9916

BÍLAHÚS

Bergstaðir - Bergstaðastræti 6, 101 Rvk. Kolaport - við Seðlabanka Íslands, 101 Rvk. Ráðhúskjallari - við Ráðhús Reykjav. 101 Rvk. Stjörnuport - Laugavegi 94, 101 Rvk. Traðarkot - Hverfisgötu 20, 101 Rvk. Vesturgata - Vesturgötu 7, 101 Rvk. Vitatorg - Skúlagötu/Vitastíg, 101 Rvk. Nánari upplýsingar www.bilastaedasjodur.is

BÍLARÉTTING, SPRAUTUN,TJÓNAMAT

Arctic trucks ehf. Klettshálsi 3, 110 Reykjavík Sími 540 4900, www.arctictrucks.is A.B. skálinn, Gagnheiði 11, Selfossi s. 482 2200 Bifreiðaverkst.Kaupf. Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími. 455 4570 fax.455 4571 Bílamálun Egilsstöðum ehf. Fagradalsbraut 21 Sími 471 2005, 700 Egilsstöðum, Bílamálunin Lakkhúsið, Smiðjuvegi 48 200 Kópavogi, Sími 567-0790, www.lakkhusid.is Bílar og tjón ehf.Skemmuvegi 44m Bleik gata 200 Kópavogi, Sími 578 5070, www.bilarogtjon.is Bílasprautun og réttingar Hjartar Smiðjuvegi 56 rauð gata, Kópavogi, S.587 9020, rettingar.is Bliki- Bílamálun og réttingar ehf, Smiðjuvegi 38 gul gata, 200 Kópavogi,S.567 4477 Bílverk BÁ ehf, Gagnheiði 3, 800 Selfossi Sími 482 2224, Fax 482 2354 www.bilverkba.is 5 stjörnu vottað, bilverkba@simnet.is Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík S. 567 8686 Lakkskemman ehf.Skemmuvegi 30, blá gata 200 Kópavogi, Sími 557 4540 Réttingaverk ehf,Hamarshöfða10,RvkS.5674343 Réttingaþjónustan ehf, Smiðjuvegi 40, gull gata Kópavogi, s. 557 6333, rettingathjounstan@itn.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Réttur – bílaréttingar, Funahöfða 17, 108 Reykjavík s. 587 6350, F 587 6351, rettur.net Smáréttingar ehf. – Réttingaþjónusta Smiðjuvegi 36 gul gata, 200 Kópavogi S.588 4644 Víkur-ós ehf, Bæjarflöt 6, 112 Reykjavík Sími 587 7760, Fax 587 7761, www.vikuros.is

BÍLASÖLUR

Bílver ehf. Innnesvegi 1, Akranesi s.431 1985, Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 471 1436, Nýir og notaðir

BÍLAVARAHLUTIR

AB Varahlutir, Bíldshöfða 18, Rvk, s.567 6020 E.T. Einar og Tryggvi, Klettagarðar 11 Rvk, S. 568 1580, F. 568 0844 www.et.is Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík Sími 520 8000, www.stilling.is Volvovarahlutir.is Parts4u.is, Febest.is Varahlutaverslunin Kistufell ehf, Brautarholti

105 Reykjavík, Sími 562 2104, www.kistufell.is Mekonomen, Smiðsbúð 2, 210 Garðabær, Símli 527 2300, www.mekonomen.is Ljósboginn ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík Sími 553 1244, ljosboginn@simnet.is

BÍLAUMBOÐ

Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sími: 590 2100, www.askja.is Bernhard, Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík Sími: 520 1100, www.bernhard.is Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8, 110 Reykjavík Sími: 5157000 www.brimborg.is BL, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 525 8000 www.bl.is Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, 110 Reykjavík Sími: 590 2000, www.benni.is Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Toyota, Kauptún, Garðabær Sími: 570 5070, www.toyotakauptuni.is Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími: 568-5100, www.suzuki.is

ALMENN BIFREIÐAVERKSTÆÐI

Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, rauð gata, Kópavogi Sími 557 2540, Verkstæði/smurþjónusta, bilhusid.is Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d, rauð gata 200 Kópavogi, Sími 557 6400, Fax 557 7258 Bifreiðaverkstæðið Baugsbót, Frostagötu 1b, 603 Akureyri S.462 7033, Metanísetningar Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar Smiðjuvegi 22, græn gata, 200 Kópavogi Sími 567 7360, Fax 557 7374, www.bfo.is Bifreiðaverkstæði Grafarvogs ehf, Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík, Sími 577 4477, Þjón. Bílabúð Benna Bifreiðaverkstæði Jónasar, Skemmuvegi 46, 200 Kópavogur, sími 557 1430. www.jonasar.is Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri Iðjuvöllum 5, 880 Kirkjubæjarklaustri S.487 4630, Gsm 820 4515, Verkstæði, hjólbarðaverkstæði, Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, S.455 4570 F.455 4571 Bifreiðaverkstæðið Pardus. Suðurbraut 565 Hofsósi, S.453 7380 pardus@pardusehf.is, Bílanes – Grandanes ehf. Bygggörðum 8, 170 Seltjarnarnesi S.561 1190, GSM 698 2212. Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, Almennar viðgerðir. Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 4705070, www.bva.is Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílaþjónusta Péturs ehf, Vallholti 17, 800 Selfossi Sími 482 2050, Alhliða viðgerðaverkstæði, smurstöð Bíljöfur bifreiðaverkstæði ehf. - biljofur.is Smiðjuvegi 34, 200 Kópavogi, Sími 544 5151 Bílstál ehf, Askalind 3, Kópavogi Sími 564 4632 Bílver ehf, Innnesvegi 1,300 Akranesi S. 431 1985 Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Jeppasmiðjan ehf,Ljónsstöðum Árborg 801 Selfossi Sími 482 2858, Fax 482 1004, Varahlutir/breytingar Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi S. 564 1268, Þjónusta fyrir Renault, Hyundai, Land Rover, BMW Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Vélastilling sf, Auðbrekku 16, 200 Kópavogur

Sími 554 3140, Fax 564 4460, velastilling@simnet.is Vélrás Bifreiða- og vélaverkstæði velras@velras.is Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Sími 577 6670

BÍLSKÚRSHURÐIR OG OPNARAR

BIFREIÐAÞJÓNUSTA

BIFREIÐASKOÐUN

Glófaxi ehf. blikksmiðja, Ármúla 42, 108 Reykjavík Sími 581 2900, Fax 588 8336, www.glofaxi.is Héðinn, Gjáhellu 4, Hafnarfjörður, Sími 5692100 Bílskúrshurðaþjónustan, sími 892 7285

BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐVAR Bílaþvottastöðin Löður ehf, Sími 544 4540, www.lodur.is

HJÓLBARÐAR OG ÞJÓNUSTA

Barðinn Skútuvogi 2, Reykjavík, s. 568-3080. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími 455 4570 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, bilvogur@simnet.is Dekkjahöllin, Skeifan 5, 108 Reykjavík, S.581 3002 Draupnisgata 5, 600 Akureyri S. 462 3002 Þverklettar 1, sími 471 2002, www.dekkjahollin.is Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hátúni 2a 105 Reykjavík, Sími 551 5508 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Gylfaflöt 3 112 Reykjavík , Sími 567 4468 Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Sólning hf, Smiðjuvegi 68-70, 200 Kópavogi Sími 544-5000, www.solning.is Njarðvík, Fitjabraut 12, s.421-1399 Selfossi, Austurvegi 52, s,482-2722 Hafnarfjörður, Rauðhellu 11, s. 568-2035 Hafnarfjörður, Hjallahraun 4, s. 565-2121 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is

PÚSTÞJÓNUSTA

Kvikk Þjónustan, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Drangahrauni 1, Hafnarfirði, s. 520 0600 kvikk.is

KERRUR OG DRÁTTARBEISLI

Vagnar og þjónusta,Tunguhálsi 10, Rvk s.567 3440

VERSLUN, LÁSASMIÐIR OG ÞJÓNUSTA

Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík Sími 567 2330, Fax 567 3844, bilasmidurinn.is Neyðarþjónustan lykla- og lásasmiður Skútuvogur 11, Reykjavík, s.5108888 Neyð.8006000

RAFGEYMAR OG ÞJÓNUSTA

Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17, 220 Hafnarfirði Sími 565 4060, www.rafgeymar.is Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík S. 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Skorri ehf, Bíldshöfða 12, 110 Reykjavík Sími 577 1515, Fax 577 1517, www.skorri.is

SJÁLFSKIPTIVIÐGERÐIR

Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi,S. 564 1268

SMURSTÖÐVAR

Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 14 00, bilaattan@bilaattan.is Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Smurstöðin Fosshálsi, Fosshálsi 1, Rvk s.567 3545 Smurstöðin Akranesi, Smiðjuvöllum 2, S.431 2445 Stimpill ehf, Akralind 9, Kópavogi, Sími 564 1268 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is

VINNUVÉLAR

Vélfang ehf, Gylfaflöt 32, 112 Reykjavík Sími 580-8200, velfang@velfang.is www.velfang.is

55


Varahlutir í bílinn Ve r ksmiðju á byrgð á þ í n u m b í l er tr y g g ð með vot t u ðu m va rah l u tu m f rá Sti l l i n g u

Smursíur

Rafgeymar

Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar

Tímareimar og vatnsdælur

Kúplingar

Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir

56

Allt fyrir bílinn St il l in g hf. | Sí mi 5 2 0 8 0 0 0 | w w w. s t i l l i n g . i s | s t i l l i n g @ s t i l l i n g . i s


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
FÍB Blaðið 3 tbl. 2018 by Félag íslenskra bifreiðaeigenda - Issuu