1.tbl. 2017
F É L A G
Í S L E N S K R A
B I F R E I Ð A E I G E N D A
Ef vegatollar verða að veruleika!
VIÐBÓTAR SKATTHEIMTA MEÐ VEGATOLLUM
Þá verða væntanlega stofnuð hlutafélög, ehf eða ohf eftir atvikum, stjórnir verða skipaðar, framkvæmdastjórar ráðnir og launakjör þeirra og stjórnarmanna verða ákveðin, húsnæði keypt eða leigt til starfseminnar og starfsmenn ráðnir. Undir öllu þessu þurfa vegatollarnir að standa sem og undir stofn- og rekstrarkostnaði gjaldhliðanna og innheimtukerfisins.
Neytendamál Bréf FÍB til ráðherra
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ VERÐI SVIPT NEYTENDAVAKTINNI GAGNVART TRYGGINGAFÉLÖGUNUM
SUMARRDEKKJA KÖNNUNIN 2017
RAFBÍLAVÆÐINGIN Reynsluakstur
BMW 3i JEEP GRAND CHEROKEE SKODA KODIAQ
1
2
3
www.n1.is
facebook.com/enneinn
Rúllaðu inn í sumarið á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
Michelin CrossClimate
Michelin Energy Saver
Michelin Primacy 3
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir.
Margverðlaunuð fyrir veggrip, endingu og eldsneytissparnað.
Einstakir aksturseiginleikar.
Dekk sem henta margbreytilegum íslenskum aðstæðum sérlega vel og veita frábæra aksturseiginleika.
Frábært grip og góð vatnslosun. Ein bestu sumardekkin á markaðnum í dag.
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða Fellsmúla Réttarhálsi Ægisíðu
4
440-1318 440-1322 440-1326 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ Reykjavíkurvegi Hafnarfirði Grænásbraut Reykjanesbæ Dalbraut Akranesi Réttarhvammi Akureyri
440-1378 440-1374 440-1372 440-1394 440-1433
Opið mán – fös laugardaga www.n1.is
kl. 08-18 kl. 09-13
Hluti af vorinu
Vegatollar, nýir skattar og slæm nýting fjármuna almennings Gera má ráð fyrir því að á þessu ári innheimti ríkissjóður um 70 milljarða króna í skatta af bifreiðum og umferð. Ef helmingnum af því skattfé væri varið til viðhalds, þjónustu og nýframkvæmda á þjóðvegakerfinu, væri verið að viðhalda vegakerfinu og byggja til framtíðar. ÚTGEFANDI FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA
Ritstjóri Stefán Ásgrímsson/ Jón Kristján Sigurðsson Ábyrgðarmaður Runólfur Ólafsson HÖFUNDAR EFNIS: Jón Kristján Sigurðsson Róbert Már Runólfsson Runólfur Ólafsson Stefán Ásgrímsson UMBROT/AUGLÝSINGAR Bogi Auðarson bogi@fib.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja UPPLAG 16.500 FÍB Blaðið kemur út þrisvar á ári og er innifalið í árgjaldinu. Árgjald FÍB er kr. 7.500.Heimilt er að vitna í FÍB blaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið
FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA
Skúlagata 19 101 Reykjavík Sími: 414-9999 Fax: 414-9998 Netfang: fib@fib.is Veffang: www.fib.is
Núverandi ríkisstjórn er rétt að hefja feril sinn en hefur þegar afrekað að aftengja samgönguáætlun frá liðnu hausti og nýr samgönguráðherra talar hátt fyrir afturgengnum hugmyndum um vegtolla. Samkvæmt fjárlögum 2017 eiga rúmir 28 milljarðar króna að renna til Vegagerðarinnar. Undir Vegagerðina er búið að setja marga framkvæmda- og kostnaðarliði sem hafa ekkert með vegagerð og veghald að gera. Þarna má nefna vitamál, innanlandsflug, hafnarmál og styrk við innviði fyrir stóriðju á Bakka við Húsavík. Þegar rýnt er í fjárveitingar Vegagerðarinnar rennur aðeins um 33% af innheimtum bílaköttum –með 1.200 m.kr. viðbótarframlaginu - til vegamála. Vorið 2015 var gerð opinber skýrsla starfshóps sem innanríkisráðherra síðustu ríkisstjórnar skipaði til þess að kanna möguleika á einkaframkvæmd í vegagerð hér á landi. Var hópnum ætlað að fjalla um mögulegar einkaframkvæmdir í vegakerfinu með það í huga að flýta þeim. Í stuttu máli var niðurstaða hópsins sú að ekki væri rétt eða álitlegt að skoða aðra framkvæmd en Sundabraut. Þetta var niðurstaða starfshóps ráðherra samgöngumála fyrir tveim árum samflokka núverandi samgönguráðherra sem hefur ákveðið að setja sinn þriggja manna hóp í málið. Spurning hvað hefur breyst frá innan við tveggja ára gömlu áliti sérfræðinga innanríkisráráðherra um einkaframtak í vegagerð? Ríkið hefur þær skyldur gagnvart almenningi að fara vel með fjármuni sem til þess eru lagðir og tryggja að nýting þeirra sé hagkvæm og skili árangri. Nýting fjármuna hefur mikil áhrif á hvaða verkefnum er hægt sinna og hvernig til tekst við að ná settum markmiðum.
(sjá www.fjarmalaraduneyti.is) Getur það verið markmið í sjálfu sér að skera fjárveitingar niður fyrir sársaukamörk til þess að hægt sé að fela einhverjum innheimtu vegatolla – nýrra skatta –með rúllugjaldi á umferðina til og frá höfuðborginni. Hugmyndir um einkavæðingu ákveðinna samgöngubóta er ávísun á óþarfa kostnaðarauka og mismunun þegnanna. Hlutfallslegar tekjur ríkisins af bílum og umferð eru mestar á Suðvesturhorninu og þar telur ráðherra í ríkisstjórninni sem er þingmaður fyrir Suðvesturkjördæmi eðlilegt að skoða sérstaklega að leggja á nýja skatta. Þessar hugmyndir ganga í berhögg við vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Það að taka einn og einn kafla af samhangandi og samstæðu þjóðvegakerfi landsins út úr og gera gjaldskyldan, er brot á grundvallarhugmyndinni um þjóðvegi samfélagsins. Hugmyndin um að sérstakt eignarfélag, hvaða nafni sem nefnist, ehf, ohf, sem byggi, eigi og reki með gjaldtöku valda lykilkafla í þjóðvegakerfi Íslands er óásættanleg mótsögn við grundvallarhugmyndina um samhangandi þjóðvegakerfi ríkisins íþágu allra byggða, í þágu allra landsmanna jafnt. Gott vegakerfi er lykill að auknum hagvexti og viðhaldi byggða um allt land. Ríkið hefur byggt það upp og rekur á samfélagslegum og hagfræðilegum forsendum. Hvalfjarðargöng fóru í einkaframkvæmd á sínum tíma. Nýframkvæmd og samgöngubót en ökumenn áttu eftir sem áður val um að aka veginn um Hvalfjörð. Vegfarendur greiddu um 1.400 m.kr. í veggjöld undir Hvalfjörð 2016. Það að taka Suðurlandsveg, Vesturlandsveg og Reykjanesbraut undir umsjón nýrra samgöngufélaga er eignaupptaka frá borgurunum sem hafa borgað fyrir uppbyggingu þessara vega með bílasköttum sínum í áratugi. Áætlanir um breytingar þarf að leggja fyrir þjóðina fyrst. Það hefur ekki verið gert.
Runólfur Ólafsson
Framkvæmdarstjóri
5
Efnisyfirlit 8
24
Rafbíllinn alveg frábær
10 Ljúka við Reykjanesbraut 12
Sumardekkjakönnun FÍB
18
Starfsmenntun - Verkiðn
20 Vegatollar viðbótarskattheimta
12
12 SUMARDEKKJAKÖNNUN FÍB
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ SVIPT NEYTENDAVAKTINNI?
22 Bensínstöðvarfjöldi 24 Fjármálaeftirlitið ekki starfhæft 26 Elsti FÍB félaginn 28 Jeep Grand Cherokee bílaprófun 30 Rafbílavæðingin 32
Vinsælustu bílarnir í Evrópu
34 Skoda Kodiaq bílaprófun 37
BL kynnir bílgreinina
40 BMW i3 bílaprófun 43 Jaguar kominn til landsins 48 EuroRap vegrýni 20 ára 50 FÍB verslun Skúlagötu 19 52 Show your card 53 Nýjir afsláttaraðilar FÍB 54 Bifreiðaþjónusta
AÐ LEIÐARLOKUM Um það bil tveir áratugir eru síðan undirritaður kom til starfa hjá FÍB til að hafa umsjón með blaði og fréttavef félagsins. Nú lýkur samstarfinu og er þetta blað það síðasta sem út kemur undir minni umsjá. Arftakinn er þegar tekinn til starfa. Hann er Jón Kristján Sigurðsson, þrautreyndur blaðamaður og ritstjóri. Þegar ég kom til starfa stóð FÍB í hörðum slag út af bifreiðatryggingum, ekki bara við tryggingafélögin heldur líka við opinbera kerfið sem ætla mátti 6
20 VIÐBÓTARSKATTHEIMA MEÐ VEGATOLLUM að bæri fyrst og fremst skylda til að gæta hagsmuna almennings gagnvart sjálftöku og okri voldugra samtryggðra tryggingaviðskiptablokka. En einmitt þegar íslenskum neytendum stóðu til boða ódýrari bifreiðatryggingar á alþjóðlegum tryggingamarkaði, taldi hið opinbera eftirlitskerfi sér helst skylt að eyða tíma og orku í það að ávíta FÍB harðlega fyrir orðalag í greinum og í auglýsingum. Eftir tryggingaslaginn tóku ný verkefni við og ég fullyrði að öll hafa borið mikinn árangur til hagsbóta fyrir félagsmenn og allan almenning enda þótt ekki hafi þau öll verið í sérstöku hámæli. Þar má nefna aðild félagsmanna að mjög víðtæku innlendu afsláttaneti og að stærsta afsláttarklúbbi heimsins, SYC, þegar þeir eru á ferðalögum erlendis. Þá má nefna það aðhald sem félagið veitir bæði ríkisvaldi og einkaaðilum og að þeir gangi ekki á rétt almennings. Í raun er FÍB ekki eins og margir virðast enn halda, félagsskapur hálfgamalla bíladellukalla, heldur fyrst og fremst sérhæft neytendafélag sem leitast við að gæta hagsmuna félagsmanna og almennings gagnvart opinberum og
óopinberum aðilum sem virðast líta á fólk sem einskonar bústofn eða jafnvel veiðidýr. Í því sambandi skal hér minnt á baráttu félagsins fyrir fimm árum gegn fyrirætlunum stjórnmálamanna um stórfellda eignaupptöku og einkavæðingu mikilvægra hluta vegakerfisins og stóraukna skattheimtu af notendum vega í formi vegatolla. Nú hefur vegatolladraugurinn aftur verið uppvakinn og enn hefur FÍB orðið að snúist til varnar fyrir hönd almennings. Við leiðarlok vil ég óska FÍB gæfu og gengis - að félagiðverði alltaf síungt og sívakandi yfir velferð almennings. Það er sjaldan létt verk, en því auðveldara verður það eftir því sem fleiri ganga til liðs við félagið. Félagsmönnum hefur vissulega fjölgað jafnt og þétt mörg undanfarin ár og eru nú rúmlega 16 þúsund talsins. En því fleiri sem ganga til liðs við FÍB, þeim mun sterkari verður rödd þess. Munum það.
Stefán Ásgrímsson ritstjóri
Við viljum hafa pláss fyrir allt Lífið tekur breytingum með tímanum. Börnin stækka, þeim fjölgar, áhugamálin breytast, ferðalögin lengjast. Það sem ekki breytist er að við þurfum pláss fyrir alla og allt sem þeim fylgir. Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun bilið í bílakaupunum.
7
H VÍ TA HÚSI Ð / SÍ A
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
BÍLAPRÓFUN FÍB RAFBÍLAR
Ingimar Snorri Karlsson er afar ánægður með rafbílinn sem hann fékk sér fyrir tveimur mánuðum síðan. Hann er hér á myndinni með eiginkonu sinni Ólöfu G. Kristjánsdóttur.
,,BÍLLINN ER FRÁBÆR OG HEFUR KOMIÐ OKKUR Á ÓVART Í ALLA STAÐI”
Þ
að færist í vöxt að fleiri festi kaup á sínum fyrsta rafbíl og er Ingimar Snorri Karlsson í þeim hópi. Ingimar, sem alltaf hefur verið bílaáhugamaður, er búinn að eiga marga bíla um ævina. Ingimar hafði um nokkra hríð velt því fyrir sér að kaupa rafbíl og lét núna verða af því fyrir tveimur mánuðum og varð Nissan Leaf fyrir valinu. Ingimar segist vera í sjöunda himni með þessi kaup og bíllinn hafi á allan átt reynst sérlega vel og komið skemmtilega á óvart. Hann mæli eindregið með því að fólk, sem sé að íhuga þennan kost, skoði það með opnum huga að festa kaup á einum slíkum. Kostirnir séu umtalsverðir og það séu ótvírætt mjög spennandi tímar fram undan hvað rafbílana áhrærir. Snöggur og lipur „Ég hef lengstum verið með tvo bíla. Á núna Benz-jeppa sem mér líkar mjög vel við og svo var ég einnig með eldgamlan bíl, Toyota Corolla ´89 módel. Við félagarnir í Trésmiðjunni Berki ákváðum að kaupa fjóra bíla af gerðinni Nissan Leaf og það verður bara að segjast eins og er að við erum allir í skýjunum með þessa bíla. Bíllinn er hljóðlítill en rafmagnsbílarnir eru gerðir þannig að aflið kemur beint. Það eru engin drifsköft og ekkert sem tefur fyrir átakinu þegar maður stígur á pinnann. Bíllinn er bara frábær, snöggur og lipur í alla staði. Bíllinn hefur komið okkur skemmtilega á 8
óvart. Það er kannski einhverjir ennþá í vafa en ég er búinn að hitta marga rafbílaeigendur og allir eru þeir afar sáttir,“ sagði Ingimar. Hann segir ennfremur að það sem hafi komið honum einna helst á óvart er hvað þessir bílar eru snöggir upp, hljóðlátir og mjúkir. Auðvitað er ekki allt alveg fullkomið eins og drægi bílsins. Hann er gefinn upp fyrir 250 km drægi en þeir sögðu okkur það strax í umboðinu að hann færi líklega ekki lengra en 150-180 km við venjulegar aðstæður. Það hefur líka komið í ljós að drægi bílsins er á þessu bili á hleðslunni. Við vitum líka að þessir bílar eru ekki eins hljóðeinangraðir frá vegi. Það er meira veghljóð í rafbílnum heldur en í Bensanum sem ég á. Ingimar sagði að það breytti því ekki að kostir bílsins væri ótvíræðir. Minnsta mál að hlaða bílinn ,,Ég keyri bílinn aðallega innanbæjar á Akureyri en svo hef ég einnig farið á honum austur í sumarbústað í Fnjóskadal. Þegar maður er að fara upp Vaðlaheiðina tekur bíllinn eðlilega mikinn straum en þegar bílinn fer svo undan brekku austan í heiðinni safnar hann inn á sig í kringum 14 km. Þannig virkar þetta, undan brekku er hann að hlaða inn á geyminn og eins þegar maður stígur á bremsuna. Sama er síðan uppi á teningnum þegar maður fer til baka úr bústaðnum inn á Akureyri. Það er síðan minnsta mál að hlaða bílinn þegar heim er komið. Ef
eitthvað kemur upp á er hægt að komast í hraðhleðslu niðri í bæ og hann hleður um 80% á hálftímanum,“ segir Ingimar. Rafbílarnir mjög álitlegur kostur Ingimar segir að fólk eigi hiklaust að skoða möguleikana sem rafbíll hefur upp á að bjóða og þá sem aukabíl á heimilinu. Það eru að vísu ennþá vandkvæði að fara út á land en hleðslustöðvum fer sem betur fer fjölgandi. Ef ég ætlaði að keyra á bílnum suður þá þyrfti ég að stoppa t.d. í Varmahlíð til hlaða en það gætu jafnvel 3-4 bílar verið á undan mér. Það er ekki alveg ákjósanleg staða að þurfa að bíða en þetta á eftir að lagast smám saman. Það eru að vísu komnir bílar sem komast alla leið á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ég prófaði að keyra Teslu á dögunum og það var í fáum orðum sagt engu líkt. Aflið í bílnum var gríðarlegt. ,,Það eru bara svo ofsalega spennandi tímar fram undan í þessum efnum. Við félagarnir í trésmiðjunni erum í að það minnsta mjög ánægðir með þessa bíla sem við festum kaup á og við förum ekki á hina bílana nema alveg í neyð. Svona öllu gamni slepptu notum við bensín og díselbílana þegar um langan veg er að fara. Rafbíllinn er mjög áhugaverður og fyrir fólk sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu er það svakalega spennandi kostur,“ segir Ingimar Snorri Karlsson.
ALLTAF VELKOMIN
RÉTTU DEKKIN! Réttu dekkin draga fram bestu eiginleika bílsins og veita hámarks öryggi við misjöfn akstursskilyrði. Fáðu ráðleggingar fagmanna okkar við val á réttum dekkjum fyrir þig.
Tangarhöfði 15 110 Reykjavík 590 2045
Fiskislóð 30 101 Reykjavík 561 4110
Grjótháls 10 110 Reykjavík 561 4210
Lyngási 8 210 Garðabæ 565 8600
Njarðarbraut 9 260 Reykjanesbæ 420 3333
9 nesdekk.is
561 4200
BÍLAPRÓFUN FÍB ÖRYGGISMÁL
Stjörnugjöf EuroRap
BRÝN ÞÖRF AÐ LJÚKA TVÖFÖLDUN REYKJANESBRAUTAR
F
jölmennur íbúafundur um tvöföldun Reykjanesbrautar var haldinn í Stapa í mars sl. en fundurinn var haldinn á vegum Reykjanesbæjar. Ennfremur var sýnt beint frá fundinum á vef Víkurfrétta og nýttu sér þá þjónustu hátt í eitt þúsund manns. Tvöföldun Reykjanesbrautar hefur verið baráttumál Suðurnesjamanna undanfarin ár og umferðarþungi hefur vaxið jafnt og þétt.Bæjaryfirvöld og íbúar Reykjanesbæjar telja brýnt að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar
sem allra fyrst. Umferðarþunginn sé gríðarlegur með tilheyrandi slysahættu sem bæjarbúar og aðrir notendur Reykjanesbrautar hafi miklar áhyggjur af.Tilgangur fundarins var að varpa ljósi á stöðuna og gefa íbúum tækifæri til að leggja fram spurningar og tjá sig. Guðbrandur Einarsson forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, ávarpaði fundinn í upphafi. Síðan flutti erindi Ísak Ernir Kristinsson frá Stopp hópnum (Stopp hingað og ekki lengra) hópi sem berst fyrir auknu umferðaröryggi á Reykjanesbraut. Þess má
geta að þessi hópur telur í dag um 16 þúsund manns. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs hjá Reykjanesbæ, var með yfirlit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á Reykjanesbraut ofan Reykjanesbæjar sem miða að auknu umferðaröryggi, hringtorg og breytt lega vega. Steinþór Jónsson, formaður FÍB, flutti erindi um öryggi á vegum, úttekt FÍB. Þá ávarpaði Jón Gunnarsson samgönguráðherra fundinn. Ólafur Helgi Kjartansson var fundarstjóri.
VIÐBÆTUR UM REYKJANESBRAUTINA
Í
nýrri úttekt FÍB um öryggi á vegum sem gerð er eftir stöðlum EuroRap kemur fram að Reykjanesbrautin fær minnst eina stjörnu en mest fimm stjörnur sem er hæsta einkunn. Allir vegir landsins hafa verið eknir og upplýsingar um þá skráðir í sérstakt kerfi sem gefur vegum og vegaköflum stjörnur. Í máli Steinþórs Jónssonar, formanns FÍB, er Reykjanesbrautin t.d. fjögurra stjarna vegur frá Keflavík til Reykja-
10
víkur að mestu leyti en þriggja frá Reykjavík til Keflavíkur vegna ljósastauranna. Steinþór sagði engar örygg-isgrindur um þá og auðvitað hefðu ljósastaurarnir átt að vera í miðjunni. Steinþór sagði ennfremur að sums staðar er hægt að laga Reykjanesbrautina með frekar litlum tilkostnaði og vegahaldarar geta brugðist við svörtu Euro RAP punktunum og lagaðþá með litlum tilkostnaði.
Félag Íslenskra Bifreiðaeigenda (FÍB) sér um framkvæmd EuroRAP á Íslandi.
15. apríl eiga nagladekkin að vera farin undan – vertu tímanlega
NOKIAN LINE DEKKAR VEL SÍBREYTILEGAR AÐSTÆÐUR Nokian Line sumardekkið býr yfir eiginleikum sem bregðast frábærlega við síbreytilegu yfirborði vega á sumartíma. Nýjungar Nokian Line sumardekksins felast í þverrásum og safnraufum sem gera það mjög stöðugt og með framúrskarandi gripi við allar aðstæður. Nokian Line er hannað til að ná fram hámarks öryggi og góðri aksturstilfinningu og þetta vandaða sumardekk býður öryggi og þægindi frá fyrstu vordögum og vel fram eftir hausti.
Ð! R E V T R Æ FRÁB ðsverði:
ku tilbo ir á sérstö
i stærð ftirfarand Bjóðum e
90 kr. R16 á 9.9 5 5 5 0 2 kr. Stærð 5 á 8.990 1 R 5 6 5 og Stærð 19 ðir, úrval r æ t s r a r að Skoðaðu erð á max1.is v frábært
IG EIGUM EINN L MIKIÐ ÚRVA KJA HEILSÁRSDEK RÐI! VE Á FRÁBÆRU M ALLT
U SENDUM
VIÐ ERUM Á ÞREMUR STÖÐUM Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Bíldshöfða 5a, Reykjavík Jafnaseli 6, Reykjavík Dalshrauni 5, Hafnarfirði
Opið: Virka daga kl. 8-17 Laugardaga: sjá MAX1.is
LAND
Aðalnúmer: 515 7190
11
Sumarhjólbarðarnir 2017
Dýru dekkin almennt öruggust
N
ý gæða- og öryggiskönnun á sumarhjólbörðunum 2017 leiðir í ljós að enn sem fyrr eru það dýru vörumerkin sem í heild reynast öruggust þótt hin ódýru nái oft ágætis árangri – árangri sem kemur á óvart. Það er fyrst og fremst í bleytunni sem gæðamunurinn kemur fram. Þar verða skilin milli öruggu hjólbarðanna og þeirra minna öruggu skýrastur. Könnunin sem hér birtist er gerð af Motor, félagsblaði hins norska systurfélags FÍB; NAF í samvinnu við TestWorld. Hún nær til 18 tegunda nýrra sumarhjólbarða og fór fram á tilraunaaksturssvæði við Marseilles í S. Frakklandi. Að venju voru allir hjólbarðarnir prófaðir í margskonar akstursaðstæðum og þess stranglega gætt að þær væru alltaf þær sömu fyrir alla hjólbarðana. Þá var einn og sami bíllinn notaður við prófanir allra hjólbarðategundanna til að þessi könnun leiddi eins marktækan samanburð í ljós og frekast mætti verða. Þeir sumarhjólbarðar sem best stóðust prófin þetta árið eru Nokian
12
Hakka Blue 2 í efsta sætinu. Sáralítill munur reyndist vera á því næst besta sem er Continental Premium Contact 5. Í þriðja sæti er svo Michelin Primacy. Þeir ódýru ekki allir slæmir Undanfarin ár hefur evrópskum, þar á meðal íslenskum neytendum
staðið til boða að kaupa hjólbarða frá framleiðendum í Kína og fleiri Asíuríkjum á mjög hagstæðu verði yfirleitt. Gæðin hafa hins vegar reynst upp og ofan, sumar tegundir hafa komið illa út í gæðakönnunum en alls ekki allar. Í þessari könnun er það einmitt raunin en þó með þeirri gleðilegu undantekningu að ódýru asísku vörumerkin Kenda og
Linglong skipast í hóp gæðahjólbarða og hljóta heildareinkunnina 8,3 af 10 mögulegum. Það er sérstaklega við prófanir á hemlun í bleytu sem gæðamunur hjólbarða verður ljós. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægt og því styttri sem hemlunarvegalengdin er, þeim mun öruggari er hjólbarðinn. Hjá sumum af ódýru hjólbörðunum er hemlunarvegalengdin í bleytu einfaldlega óásættanlega löng auk þess sem þessir barðar missa veggripið á tiltölulega lágum hraða og fljóta of auðveldlega upp (aquaplana) og verða þar með stjórnlausir. Þessi könnun leiðir í ljós að hemlunarvegalengd í bleytu á ódýru Asíudekkjunum er að meðaltali verulega lengri en á dýru tegundunum auk þess sem þau fljóta fyrr upp og missa veggripið. Er prófunin óháð? Í hvert sinn sem gæðakannanir þessar birtast verða einhverjir til þess að draga í efa að þær séu marktækar og ýja að því að þessi eða
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18.
hinn hjólbarðaframleiðandinn eða þá –innflytjandinn hafi greitt með einhverjum hætti fyrir góða umsögn um sín dekk. Því skal enn einu sinni tekið skýrt fram að hvorki NAF eða FÍB er til sölu og hefur aldrei né mun falbjóða sig með slíkum hætti. Allir dekkjagangarnir í könnuninni voru keyptir inn hjá mörgum smásölum og innflytjendum í Noregi. Kaupendurnir gerðu það í eigin nafni en aldrei í nafni NAF né heldur tímaritsins Motor. Dekkjagöngunum var síðan safnað saman í gám sem fluttur var á prófunarstaðinn við Marseilles. NAF tilgreinir ekki verð dekkjanna vegna harðrar verðsamkeppni. Á Íslandi er allt útlit er fyrir harðnandi verðsamkeppni í dekkjasölunni en áður með komu Costco til Íslands. Illmögulegt er því að slá nokkru verði föstu. Neytendum skal ráðlagt að spyrjast fyrir um verð hjá nokkrum aðilum með því að hringja eða senda tölvupóst, áður en kaup á nýjum dekkjagangi eru ákveðin.
Gott veggrip í bleytu mikilvægast Öryggisins vegna er hyggilegt að einblína ekki einvörðungu á verðið þegar að því kemur að endurnýja dekkjaganginn undir bílnum. Óvenju lágu verði geta fylgt óvenju slæmir eiginleikar í akstri, eins og lítið veggrip, ekki síst í bleytu og mjög löng hemlunarvegalengd. Þannig getur nokkurra króna sparnaður reynst dýr síðarmeir ef eitthvað kemur upp á. En auðvitað er alls ekki alltaf beint samhengi milli gæða og verðs. Sum ódýr dekk geta reynst vera ágæt en það er vissulega sjaldnar sem dýr dekk reynast vera ómöguleg.
Þeir hjólbarðar sem prófaðir eru að þessu sinni eru: Nokian Hakka Blue 2 Continental PremiumContact 5 Michelin Primacy Bridgestone Turanza Pirelli Cinturato Goodyear EfficientGrip Perf Barum Bravuris 3HM Hankook Ventus Prime 3 Linglong Green-Max HP Dunlop Sport BlueResponse Kenda Emera A1 Vredestein Sportrack 5 Wanli Harmonic H220 Yokohama BluEarth AAE50 Maxxis Premitra HP5 Davanti DX 390 Falken Ecorun Duraturn Mozzo Sport
hjólbarðarnir eru af sömu stærð sem er 205/55 R16 og allir eru prófaðir undir sama bílnum sem er Volkswagen Golf.
Tilgangurinn með þessari könnun er sá að bregða hlutlausu ljósi á eiginleika 18 tegunda nýrra sumarhjólbarða. Allir eru þeir prófaðir í aðstæðum sem upp geta komið í almennum akstri og þess er vandlega gætt að sérhver þraut sem lögð er fyrir þau sé nákvæmlega eins í hvert sinn til að allur samanburður einstakra tegunda sé eins marktækur og kostur er. Allir 13
SUMARHJÓLBARÐAR
205/55 R16
Nokian Hakka Blue 2
9,1
9,2
E
r ekki með stystu hemlunarvegalengdina á votum vegi, en nær ágætum brautartímum . Reynsluökumennirnir gefa því mjög góða einkunn fyrir örugga og góða eiginleika í akstri þar sem ekkert óvænt kemur upp á. Lágvært í akstri og með lága núningsmótstöðu sem þýðir lága eldsneytiseyðslu.
Continental PremiumContact 5 Continental hemlar betur en flest hinna þegar heitt er og malbikið er mjúkt, en er heldur síðra þegar svalt er. Er í meðallagi hvað varðar þol gegn flotun í bleytu (aquaplaning). Reynsluökumenn gefa því mjög góðar umsagnir fyrir góða og örugga aksturseiginleika. Nær góðum brautartímum á votu malbiki. Eitt það besta á þurru malbiki en dálítið hávært. Slitþol í lægra meðallagi.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 34, 2016 Framleiðsluland: Finnland Ekki fáanlegt hjá umboðsaðila.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 41, 2016 Framleiðsluland: Tékkland
Svona eru dekkin prófuð Prófunarþættir og vægi Hemlun á blautu malbiki Veggrip á blautu malbiki Aksturstilfinning á blautu malbiki Hemlun á þurru malbiki Aksturstilfinning á þurru malbiki Veggnýr Núningsmótstaða Öryggið fyrir mestu Það er ekki mikill munur milli hjólbarðanna í efstu sætunum. Efst trónir Nokian og næst er Continental og munurinn er svo lítill að hann skiptir nánast engu máli. Mjög þétt eftir þeim koma svo Michelin og Bridgestone. Allt eru þetta svokölluð gæðadekk og öll eru þau í dýrari kantinum. En það fyrirfinnast líka góð dekk meðal þeirra ódýrari. Góð dæmi um 14
slíkt eru kínversku dekkin Kenda og Linglong sem bæði ná einkunninni 8,3 sem þýðir það einfaldlega að bæði eru ágætis sumarhjólbarðar með örugga aksturseiginleika. Ef þú þarft að horfa í krónurnar eru báðar þessar tegundir góður kostur og örugglega miklu betri en gömlu slitnu dekkin þín heima í geymslu. En af öryggisástæðum ættirðu að forðast dekkin neðst á listanum. Blautt malbik er yfirleitt hættulegasta sumarfærið og veggrip dekkja í bleytu er mjög mismikið. Sum eru hreinlega flughál í bleytu meðan önnur hafa tryggt grip bæði í akstri og í hemlun. Gott veggrip í bleytu er mjög mikilvægur eiginleiki og þessvegna er vægi bæði aksturs og hemlunar í bleytu þyngst. Ástæðan er auðvitað sú
að í bleytunni getur helst skilið milli lífs og dauða. Í hemlaprófuninni á blautu malbiki þurfti Duraturn hjólbarðinn 35,9 metra hemlun áður en bíllinn stöðvaðist meðan Michelin stöðvaðist á 29,5 metrum. Í þolprófinu gagnvart flotun (aquaplaning) missir Yokohama allt veggrip á einungis 65.1 km hraða en Bridgestone ekki fyrr en á 79,7 km hraða. Engin viðvörun Snertiflötur hjólbarðanna við veginn er einungis á við stærð fjögurra lófa. Það er allt og sumt. Fjórir lófastórir blettir eru eina tenging bílsins við jörðina. Það er því eins gott að veggripið sé sæmilegt. Það getur skipt lífi eða dauða ef eitthvað fer úrskeiðis í umferðinni.
8,9 Michelin Primacy
8,8
8,7
8,5
8,5
4
5
6
7
Bridgestone Turanza T001
Pirelli Cinturato P7 Blue
Barum Bravuris 3HM
Michelin nær stystri Fyrir þá sem keyra hemlunarvegalengd og mikið á votum vegum stysta brautartímanum er Bridgestone rétta á blautu malbiki. Reynsluökumennirnir hrósa sumardekkið og eitt þeirra bestu í bleytunni. því fyrir gott veggrip og Þar hefur það stutta örugga aksturseiginleika hemlunarvegalengd og og er meðal þeirra bestu er auk þess það sem síst á þurrum malbiksvegum. flýtur upp (aquaplanar). Það er hins vegar ekki jafn Að vísu hlýtur það smá duglegt að forðast flotun aðfinnslu fyrir að missa (aquaplaning) og er í því veggrip í beygju lítilsháttar efni meðal þeirra slökustu. Það er fremur hávært í akstri fyrr en æskilegast væri. Er einnig gott á þurrum en núningsmótstaðan er í vegum en þó lítilsháttar meðallagi. háværara en meðaltalið. Núningsmótstaðan er í meðallagi.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 7, 2016 Framleiðslulan: Ítalía
Umboðsaðili: N1 Verð per/stk: 18.990.Verð per/4 stk: 75.960.-
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 42, 2016 Framleiðsluland: Pólland
Umboðsaðili: Betra Grip Verð per/stk: 18.900.Verð per/4 stk: 75.600.-
Pirelli er í meðallagi hvað varðar hemlunarvegalengd í bleytu og flotun (aquaplaning). En það nær ágætum brautartímum á votum vegi og fær góðar umsagnir ökumannanna fyrir traustan og öruggan akstur og aksturstilfinningu. Á þurru malbiki er það hins vegar í meðallagi og veghljóðið er einnig í meðallagi. En núningsmótstaða þess er sú minnsta allra dekkjanna í þessu prófi. Það þýðir minni eldsneytiseyðslu.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 48, 2016 Framleiðsluland: Rúmenía
Umboðsaðili: Bílabúð Benna Verð per/stk: 18.990.Verð per/4 stk: 75.960.-
Sumarhjólbarðar hegða sér sjaldnast líkt og vetrarhjólbarðar sem gjarnan vara ökumanninn við þegar þeir eru við það að tapa veggripi. Einmitt það gera sumarhjólbarðarnir ekki. Þeir ,,vara” ekki við heldur tapa veggripinu snögglega þegar komið er í óefni. Þá fyrst sýnir það hvers það er megnugt. Lang mikilvægustu eiginleikar sumarhjólbarða eru tengdir bleytunni og eru sem styst hemlunarvegalengd, sérstaklega í bleytu, góð rásfesta, tryggt veggrip í beygjum og sem minnst hætta á flotun. Þessir eiginleikar allir saman og sitt í hverju lagi stórauka líkurnar á því að þú hafir alltaf stjórn á bílnum þótt neyðarástand skapist. Skoðaðu þessa könnun og þegar þú hefur fundið þá tegund sumarhjólbarða sem þú telur hæfa best, skaltu hringja og kanna verð hjá þremur til fjórum hjólbarðaverkstæðum/ söluaðilum. Með því gætirðu sparað ófáar krónur. Kannaðu í leiðinni möguleg afsláttarkjör eins og FÍB afslátt sem getur numið 10-15 prósentum.
Barum er í ódýrari kantinum meðal en engu að síður sannar það sig sem eitt þeirra betri. Það hemlar mjög vel á blautu malbiki og er í meðallagi í því að standast flotun (aquaplaning). Brautartímar í bleytu eru ágætir sem er staðfesting þess að veggrip er traust og öruggt. Þetta staðfesta reynsluökumennirnir í umsögnum sínum og með góðum einkunnum. Hemlunarvegalengd á þurru malbiki er fremur löng. Núningsmótstaða er lág og veghljóð er í meðallagi.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 94 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 4, 2016 Framleiðsluland: Frakkland
12v 0,8A
Goodyear EfficientGrip Performance Það kemur dálítið á óvart að Goodyear skuli mælast með einna mestu hemlunarvegalengdina á votu malbiki. Það er einkum í svölu veðri sem Goodyear spjarar sig ekki nægilega vel. Þegar hlýtt er í veðri stendur það sig mun betur. Því gengur mun betur gagnvart flotun (aquaplaning) en brautartími í bleytu er í meðallagi auk þess sem það er eilítið fljótara að tapa veggripi í beygjum en þau bestu. Hljóðlátt og með lága núningsmótstöðu.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 4, 2016 Framleiðsluland: Pólland
12v 5,5A
15
SUMARHJÓLBARÐAR
205/55 R16
8,3
8,3
8,3
8,3
8,2
8
9
10
11
12
Hankook Ventus Prime 3
Dunlop Sport BlueResponse
Kóreski Líkt og Goodyear dekkjaframleiðandinn hefur Dunlop langa hemlunarvegalengd á votum Hankook hefur valið það að framleiða þetta tiltekna vegi. Þar við bætist að dekk í Kína. Ventus Prime þegar kalt er í veðri versnar 3 er ekki það besta sem hemlunin . Gagnvart flotun hugsast getur í bleytu. er Dunlop í meðallagi Hemlun á votum vegi er og í vætu nær það ekki í meðallagi en í vatnsaga sérlega góðum brautartíma. er það meðal þeirra sem fyrst fljóta upp og missa Hvorttveggja þýðir að veggripið. En þrátt fyrir veggrip í bleytu mætti vera það er veggrip í beygjum betra. Á hinn bóginn er á blautum vegi ágætt og Dunlop meðal þeirra allra engra óþægilegra uppákoma bestu á þurrum vegi. Þar að vænta þar. Hemlun bæði hemlar það mjög vel á þurrum vegi er með og nær góðum brautartíma. ágætum í hlýindum en Núningsmótstaðan er lág síðri í kuldum. Vegdynur en vegdynur er sá mesti af er með minna móti en öllum hjólbörðunum í þesari núningsmótstaðan fremur há. könnun.
Kenda Emera A1
Þetta kínverska dekk kemur þægilega á óvart fyrir mjög jafna og góða aksturseiginleika. Þótt það hemli ekki sérstaklega vel í bleytu er það meðal þeirra sem minnst hætta er á að fljóti upp í vatnsaga. Núningsmótstaða þess er sú mesta í þessari prófun.
Linglong Green-Max HP
Vredestein Sportrack 5
Linglong er annað tveggja ódýrra kínverskra dekkja sem stendur sig ágætlega í þessari prófun. Það hemlar vel á votu en er bara í meðallagi hvað varðar flotun (aquaplaning). Það nær góðum brautartíma í vætunni. Þessu til viðbótar hlýtur það einkunnina 9 fyrir trausta og góða aksturseiginleika. Einna veikast er það á þurru malbiki, einkum sökum langrar hemlunar. Vegdynur er í meðallagi og núningsmótstaðan sömuleiðis.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 94 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 48, 2016 Framleiðsluland: Kína Hraðakóði:V 240 km/klst. Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Burðarþol: 94 Hraðakóði:V 240 km/klst. Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg.snúningsstefna:Nei Burðarþol: 91 Tilg. innhlið/úthlið: Já Tilg. innhlið/úthlið: Já Tilg.snúningsstefna:Nei Framleiðsludagsetning: Framleiðsludagsetning: Vika 17, 2016 Tilg. innhlið/úthlið: Já Vika 26, 2016 Framleiðsluland: Kína Framleiðsludagsetning: Umboðsaðili: Sólning Vika 34, 2016 Verð per/stk: 10.989.Framleiðslulan: Pólland Verð per/4 stk: 46.956.-
Aksturstilfinning í Flotun Aksturstilfinning í bleytu Aksturstilfinning Flotun bleytuá þurru malbiki Hraði
Aksturstilfinning á þurru malbiki
Hið hollensk-rússneska Vredestein bremsar vel á blautu malbiki en nær miðlungs góðum brautartíma í bleytunni þar sem það tapar beygjuveggripi fyrr heldur en þau dekk sem best eru. Veikleiki Vredestein er sá að það flýtur fljótt upp í vatnsaga (aquaplanar) og er að því leyti meðal þeirra sístu. Á þurrum vegi er það í meðallagi. Vegdynur og núningsmótstaða er sömuleiðis í meðallagi.
Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Vika 35, 2016 Framleiðsluland:Holland
Umboðsaðili: BJB Verð per/stk: 17.920.Verð per/4 stk: 71.680.-
Hemlun á þurru m
Hemlun á þurru malbiki
Hemlunarlengd Dekkjategund í metrum
Dekkjategund einkunn Dekkjategund einkunn EinkunnDekkjateg.Hraði í km/klst. Dekkjateg. EinkunnDekkjateg. Dekkjateg.Hemlunarvega
Continental Nokian Maxxis Dunlop Bridgestone Goodyear Hankook Michelin Pirelli Vredestein Yokohama Barum Duraturn Falken Kenda Linglong Wanli Davanti 16
10 9 9 9 8 8 8 8 8 8 8 8 7 7 7 7 7 7
Barum Michelin Nokian Continental Linglong Pirelli Bridgestone Goodyear Vredestein Hankook Kenda Wanli Davanti Dunlop Yokohama Maxxis Falken Duraturn
9 9 9 9 9 9 8 8 8 8 8 8 7 7 7 7 5 5
Dekkjategund
í km/klst.
Bridgestone Wanli Kenda Nokian Falken Goodyear Barum Dunlop Continental Linglong Pirelli Duraturn Davanti Maxxis Vredestein Hankook Michelin Yokohama
79.7 79.5 78.6 76.6 75.4 75.1 73.6 73.4 72.9 71.7 71.7 70.7 70.2 69.5 68.4 68.1 67.7 65.1
Michelin Yokohama Continental Hankook Dunlop Bridgestone Pirelli Vredestein Nokian Maxxis Goodyear Kenda Linglong Falken Wanli Barum Duraturn Davanti
33.5 34.7 34.9 35 35.7 35.9 36 36 36.1 36.8 37 37 37.3 37.9 38 38.9 38.9 39.9
8,2
8,2
8,1
13
14
15
Wanli Harmonic H220 Wanli er enn ein staðfesting þess að kínverskir hjólbarðaframleiðendur hafa á fáum árum tekið stórstígum framförum í því að framleiða hjólbarða með góða aksturseiginleika. Hemlunareiginleikar Wanli í bleytu eru í meðallagi en mótstöðuaflið gagnvart flotun er eitt það mesta í þessari könnun. Brautartími á blautum vegi eru góður og fyrir a<lmenna aksturseiginleika fær það einkunnina 8. Slakast er Wanli á þurru malbiki ob núningsmótstaða þess er talsverð.
Yokohama BlueEarth AAE50 Yokohama bremsar vel á blautum vegi og nær góðum brautartíma í bleytu einnig. En helsti veikleiki Yokohama er hve fljótt það flýtur upp í vatnsaga. Á tilraunabrautinni flaut það upp á 65,1 km hraða og missti veggripið meðan Bridgestone sem þar stóð sig best missti veggripið á 79,7 km hraða. Á þurrum vegum er Yokohama meðal þeirra bestu. Bæði veggnýr og núningsmótstaða er í meðallagi.
Maxxis Premitra HP5 Maxxis er ódýrt kínverskt dekk. Hemlun í bleytu er í meðallagi, brautartími þess í bleytu er undir meðallagi og það flýtur fljótt upp í vatnsaga og missir veggripið. Fyrir akstur í bleytu fær það meðaleinkunnina 7 vegna þess að bæði hemlunar- og beygjugrip í bleytunni er full lítið. Á þurru malbiki er það hins vegar bæði rásfast og öruggt í akstri. Eitt af þeim hljóðlátustu í þessari prófun.
Hraðakóði:V 270 km/klst. Burðarþol: 94 Hraðakóði:V 240 km/klst. Tilg.snúningsstefna:Nei Hraðakóði:V 240 km/klst. Burðarþol: 91 Tilg. innhlið/úthlið: Já Burðarþol: 91 Tilg.snúningsstefna:Nei Framleiðsludagsetning: Tilg.snúningsstefna:Nei Tilg. innhlið/úthlið: Já Vika 14, 2016 Tilg. innhlið/úthlið: Já Framleiðsludagsetning: Framleiðsluland:Kína Framleiðsludagsetning: Vika 14, 2016 Vika 35, 2016 Framleiðsluland: Framleiðsluland: Holland Filippseyjar
Umboðsaðili: Dekkjahöllin Verð per/stk: 16.854.Verð per/4 stk: 67.416.-
Vegdynur Vegdynur Núningsmótstaða Hemlun á votuNúningsmótstaða malbiki Hemlunarlengd Eyðsluaukning
Hemlun á votu malbiki
Veggrip á blautu
Veggrip á blautu malbiki
Dekkjategund í% Dekkjategund Dekkjategund Tími í sek. Dekkjateg.Einkunn Dekkjateg.Hemlunarvegalengd m Dekkjateg. Eyðsluaukning í % einkunn Dekkjateg.Tími í sek. Dekkjategund
í metrum
Michelin Barum Bridgestone Yokohama Linglong Vredestein Nokian Hankook Continental Pirelli Maxxis Wanli Davanti Kenda Goodyear Dunlop Falken Duraturn
29.5 30.4 30.7 30.89 31 31.4 31.5 31.6 31.8 32 32.8 32.8 33.1 33.1 33.4 33.6 33.7 35.9
Pirelli Nokian Barum Goodyear Continental Dunlop Yokohama Maxxis Bridgestone Michelin Linglong Vredestein Falken Hankook Wanli Duraturn Davanti Kenda
0 0.3 0.7 1 1.1 1.1 1.4 2.1 2.3 2.4 2.4 2.7 3.1 3.1 3.2 3.3 3.3 3.7
Nokian Continental Maxxis Hankook Bridgestone Goodyear Vredestein Linglong Wanli Barum Pirelli Yokohama Michelin Davanti Kenda Duraturn Falken Dunlop
61.3 61.4 61.6 61.7 61.8 61.8 61.8 61.9 61.9 62 62.1 62.1 62.3 62.5 62.5 62.6 62.8 62.9
Michelin Nokian Pirelli Barum Linglong Bridgestone Yokohama Continental Kenda Vredestein Goodyear Wanli Hankook Davanti Dunlop Maxxis Falken Duraturn
28 28.2 28.3 28.5 28.6 28.7 28.7 28.8 28.8 28.8 28.9 28.9 29.3 29.4 29.4 29.4 30.1 30.6
17
IÐNMENNTUN BÝÐUR UPP Á LIFANDI OG FJÖLBREYTILEGT STARFSUMHVERFI
S
amhliða Íslandsmótinu í iðn- og verkgreinum sem haldin var í Laugardalshöllinni dagana 16.-18. mars fór fram kynning hjá 25 framhaldsskólum alls staðar af landinu á fjölbreyttu námsframboði. Verkiðn hélt utan um viðburðinn en markmið samtakana um keppnir í iðn- og verkgreinum á Íslandi - SkillsIceland er að: auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar bæta ímynd iðn- og verkgreina. Í höllinni voru fyrir svörum nemendur, kennarar og náms- og starfsráðgjafar um námsframboð, félagslíf, inntöku-skilyrði og annað sem gestir vildu vita um nám og störf. Nám í framhaldsskóla er eitt skref í átt að framtíðinni. Því er mikilvægt að skoða vel þá fjölmörgu möguleika sem bjóðast og velja nám markvisst og í samræmi við áhugasvið og hæfni. Starfsmenntun býður upp á lifandi og fjölbreytilegt starfsumhverfi. Tækifærin eru mikil og atvinnumöguleikar mjög góðir þar sem skortur er á fólki með iðnmenntun. Möguleikar eru á framhaldsnámi bæði hér heima og erlendis auk þess sem starfsmenntun veitir ákveðin starfsréttindi sem gilda bæði hér á landi sem og víða erlendis. Ingibergur Elíasson hafði umsjón fyrir hönd bílagreinasviðs Iðunnar, fræðsluseturs, með hennar þátttöku í bílahluta kynningarinnar. Ingibergur er búinn að vera viðloðandi bílaiðn í áratugi en hann byrjaði að kenna bíliðnir í Iðnskólanum 1974 og var þar starfandi til 1996 þegar hún var lögð niður og flutt upp í Borgarholtsskóla. Ingibergur var þar kennslustjóri með bíliðnanáminu til 2013. Eftir það hefur hann verið verkefnastjóri hjá Iðunni sem tengist m.a. vinnulagi keppninnar. 18
Ingibergur Elíasson Aðspurður um tilgang þessarar kynningar og Íslandsmóts segir Ingibergur hana annars vegar vera keppni milli iðnnema í ýmsum iðngreinum í tilteknum verkefnum sem eru áþekk sveinsprófum og hins vegar kynnig fyrir grunnskólanemendur á iðnnámi og starfsnámi af öllu tagi. Það kom fjöldi nemenda frá skólum á Vesturlandi og austur undir Vík í skipulagaðar ferðir þar sem þau gengu um svæðið, töluðu við keppendur og fræddust á allan hátt,“ segir Ingibergur. Ingibergur segir mótið og kynninguna hafi gengið mjög vel fyrir sig. Bíliðngreinarnar sem voru þarna, bílvélavirkjun, bílmálun og bílasmíði, komust vel frá sínu og fagmannlegur bragur á öllu saman að sögn Ingibergs. „Við vildum skila okkar þætti með því að bjóða upp á þessa keppni með sóma og þeir sem unnu með okkur skiluðu sínu mjög vel,“ segir Ingibergur Elíasson.
Nánari upplýsingar www.verkiðn.is
19
VIÐBÓTARSKATTHEIMTA MEÐ VEGATOLLUM
F
ramsetning Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra á hugmyndinni um að setja upp gjaldhlið á vegina inn og út úr Reykjavík og rukka vegatolla af vegfarendum og verja þeim til endurbóta og viðhalds í vegakerfinu orka mjög tvímælis. Ráðherrann og aðrir talsmenn þessa vitna gjarnan til annarra þjóða sem sagðar eru hafa fetað sig inn á þessa vegatollabraut og svo auðvitað til blankheita ríkisins og hraklegs ástand vegakerfisins. Í þessu tali öllu er það sagt sjálfsagt og eðlilegt að notendur veganna greiði eitthvert lítilræði fyrir afnotin af þessum fjölförnustu vegarköflum landsins. Ná þurfi líka peningum af erlendum ferðamönnum og með þessu öllu saman eigi að öngla saman nægum tekjur til að hægt verði að ráðast í verulegar endurbætur bæði á meginleiðunum næst höfuðborginni og líka og ekki síður til að standa undir framkvæmdum í öðrum landshlutum. Við þennan málflutning er margt að athuga: Í fyrsta lagi er vegatollainnheimta mjög dýr og óskilvirk fjáröflunarleið. Það er mjög dýrt að setja upp og reka gjaldhliðin. Það hefur sýnt sig í Stokkhólmi í Svíþjóð. Þar hafa verið sett upp rafræn og sjálfvirk gjaldhlið á leiðirnar inn í miðborgina. Tilgangurinn var þó ekki sá að skrapa saman peninga til að lappa upp á sænska vegakerfið heldur til að draga úr bílastraumi inn í miðborgina. 20
Það er verulega ámælisvert í þessu máli að svo skömmu eftir að alþingi samþykkti nýja vegaáætlun, taki Jón Gunnarssonsamgönguráðherra sig til og hunsi hana algerlega og beri við fjárskorti.
Þótt uppsetning gjaldhliðanna í Stokkhólmi hafi verið fremur einföld og gjaldhliðin fá, varð framkvæmdin engu að síður mjög dýr -kostaði rúma 25 milljarða ísl. kr. Víst má telja að samskonar kerfi umhverfis Reykjavík yrði ekki ódýrara í uppsetningu auk þess sem miklu minna mun innheimtast hér vegna þess að íbúar Reykjavíkur, upptökusvæðis borgarinnar og landsins alls eru svo miklu færri. Bara íbúar Stokkhólmsborgar
eru 2 milljónir og 232 þúsund. Íbúar Reykjavíkur eru einungis tíundi hluti þess fjölda. Þá heimsækja Stokkhólm margfalt fleiri ferðamenn, ekki síst þeir sem koma akandi til hennar, heldur en Reykjavík. Allur samanburður við Stokkhólm er þannig marklaus með öllu. Það gefur því auga leið að ábatinn af því að gera meginvegina inn í Reykjavík, þessar eignir almennings,
Áætluð heildarskattheimta af bílum og umferð á þessu ári verður um 70 milljarðar.
upptækar og gefa einhverjum hlutafélögum er í meira lagi vafasöm fjáröflunarleið, svo ekki sé minnst á hinar lagalegu og siðferðilegu hliðar slíks gjörnings. En verði þetta gert, þá verða væntanlega stofnuð hlutafélög, ehf eða ohf eftir atvikum, stjórnir verða skipaðar, framkvæmdastjórar ráðnir og launakjör þeirra og stjórnarmanna og stjórnarformanna verða ákveðin, húsnæði keypt eða leigt til starfseminnar og starfsmenn ráðnir. Undir öllu þessu þurfa vegatollarnir að standa sem og undir stofn- og rekstrarkostnað gjaldhliðanna og innheimtukerfisins. Það verður því varla mikið afgangs til að fara í stórfelldar endurbætur og nýframkvæmdir eins og að klára tvöföldun og frágang Reykjanesbrautar, leggja Sundabraut, tvöfalda veginn milli Hveragerðis og Selfoss og byggja nýja Ölfusárbrú og eiga jafnframt afgang til að fara í löngu tímabærar framkvæmdir úti um landið, nema þá að vegatollarnir verði risavaxnir. Það hefur ætíð verið og er skoðun FÍB að innheimta notkunargjalda í vegakerfinu til viðhalds og nýframkvæmda skuli vera skilvirk og sanngjörn. Vegatollahugmyndin er hvorugt. Áætluð heildarskattheimta af bílum og umferð á þessu ári verður um 70 milljarðar. Hátt í helmingur hennar eða tæplega 35 milljarðar eru bensínog olíugjöld, sem hvort um sig er föst krónutala, og bifreiðagjaldið en upphæð þess ræðst af koltvísýringslosun eða þyngd bifreiða. Eðlilegast væri að þessir tæpu 30 milljarðar færu óskiptir til nýframkvæmda, rekstrar og viðhalds vegakerfisins en svo er hreint ekki.
Ef þeir gerðu það væri vissulega engin ástæða til að vera að deila um vegatollamál við stjórnmálamenn æ ofan í æ, oftar en ekki þá sömu sem hafa staðið að því að miðla eyrnamerktu vegafé í annað en vegi, t.d. til framkvæmda við hafnir og flugvelli og í jarðgöng milli Húsavíkur og stóriðjusvæðisins á Bakka sem eingöngu eiga þjóna stóriðjunni þar en alls ekki almennum notendum þjóðvegakerfisins. Í stað þess að verja fyrrnefndum tæpum 35 milljörðum til viðhalds, rekstrar og nýframkvæmda á þessu ári verður einungis varið 22 milljörðum að viðbættum 1.200 milljónum sem ríkisstjórninni ,,tókst” að finna alveg nýlega. Það þýðir þá að af innheimtum heildarsköttum á bifreiðar og bifreiðanotkun munu einungis 33 prósent renna til framkvæmda og viðhalds þjóðvegakerfisins sem hefur verið illa vanrækt árum saman eða
allt frá hruni. Svo boða menn nýja viðbótarskattheimtu í ofanálag við það sem landsmenn greiða nú þegar af bifreiðum og bifreiðanotkun og reyna að segja fólki að vegatollarnir séu ekki skattheimta heldur notkunargjöld. Það er verulega ámælisvert í þessu máli að svo skömmu eftir að alþingi samþykkti nýja vegaáætlun, taki samgönguráðherra sig til og hunsi hana algerlega og beri við fjárskorti. Þeir þingmenn sem samþykktu samgönguáætlunina hafa lýðræðislega skildu gagnvart almenningi. Á þeim hvílir sú skylda að öruggt sé að samþykktum fjárveitingum til viðhalds eigna samfélagsins, samgönguæðunum, sé úthlutað í samræmi við samþykktir löggjafarþingsins. Lélegir vegir eru aðför að öryggi borgaranna.
Spurningin var svohljóðandi: Vilt þú taka upp vegatolla á helstu vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu til að standa straum af kostnaði við vegakerfi landsins? Já sögðu 1.757 eða 10,5 prósent. Nei sögðu 14.441 eða 86,7 prósent. Óvissir voru 467 eða 2,8 prósent. Viðhorfskönnun þessi hófst 15. febrúar. og lauk 19. febrúar. 21
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDUR
BENSÍNSTÖ Bensínstöðvum fækkaði í Bretlandi en fjölgaði á Íslandi
F
ÍB hefur oft í tímans rás vakið athygli hversu þétt net eldsneytisstöðva er á höfuðborgarsvæðinu og hversu óhagkvæmt það hlýtur að vera. Olíufélögin og sömuleiðis borgaryfirvöld og sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæðinu gætu auðveldlega stýrt þéttleikanum –olíufélögin eftir hagrænum forsendum og yfirvöld með skipulagsaðgerðum og með t.d. með lóðaúthlutun og með því að endurúthluta lóðum vannýttra stöðva. Með endurúthlutum vannýttra eldsneytisstöðvalóða og með skipulagi gætu sveitastjórnir stutt við aðgengi nýrra aðila að eldsneytismarkaðinum í stað þess að standa vörð um þær stöðvar sem fyrir eru, eins og borgin sýndi sig í því að gera gagnvart Krónunni í Örfirisey í Vesturbæ Reykjavíkur ekki alls fyrir löngu. Þá sótti rekstrarfélag verslana Krónunnar um leyfi til að koma upp eldsneytisafgreiðslu á versla-
22
nalóðum sínum í Örfirisey í Vesturbæ Reykjavíkur og í Kópavogi. Hugmyndin var (og er) sú að selja eldsneyti á verulega lægra verði en olíufélögin gera á bensínstöðvum sínum og mæta þannig væntanlegri samkeppni við Costco. Reykjavíkurborg synjaði Krónunni um lóð úti á Granda, m.a. á mengunarforsendum en ,,ég spyr hvort það sé hlutverk skipulagsyfirvalda að segja að það komist ekki fleiri á þennan markað og vinna þannig gegn neytendum,“ sagði Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB í viðtali við Fréttablaðið. Lyktir málsins urðu þær að Reykjavíkurborg hafnaði umsókn Krónunnar með þeim rökum að bensínstöðvar í borginni væru þegar allt of margar. Fækkun stöðva erlendis Staðsetning eldsneytisstöðva er, eins og segir í nýlegri skýrsluSamkeppnisstofnunar um íslenska
olíumarkaðinn; ,,einn veigamesti áhrifaþátturinn við ákvörðun viðskiptavina um það við hvaða félag þeir versla. Með því að fjölga eldsneytisstöðvum má ná til fleiri viðskiptavina á kostnað annarra eldsneytissala.“ Gallarnir við hinar mörgu stöðvar eru hins vegar þeir að það er dýrt að byggja stöðvar, lóðir undir þær eru dýrar og dreifing á margar stöðvar er því dýrari sem stöðvarnar eru fleiri. Þetta eru ástæður þess að erlendis hefur stöðvum fækkað undanfarna áratugi. Í Bretlandi fækkaði þeim úr 10.876 árið 2004 í 8.677 2012. Það er rúmlega 20% fækkun og frá 1970 hefur þeim fækkað um 75% að því segir í fyrrnefndri skýrslu Samkeppnisstofnunar. Á tímabilinu 2002-2012 fækkaði eldsneytisstöðvum í London um 32% á árunum 2002-2012 og á Írlandi í heild hefur þeim fækkað um helming frá árinu 2000.
ÖÐVAFJÖLDI Þveröfug þróun á Íslandi Á Íslandi hefur þróunin hins vegar verið þveröfug. Tímabilið 2005-2014 fjölgaði stöðvum í landinu um 18 sem er rúmlega 8% fjölgun. Það skýrist að hluta en ekki að öllu leyti með innkomu Atlantsolíu á markaðinn og því líka að stöðv-um hinna olíufélaganna fjölgaði um þrjár samanlagt. Stöðvum N1 fækkaði á þessu tímabili um þrjár en fjölgaði hjá um sex hjá Olís. Árin 1983-2010 tvöfaldaðist fjöldi eldsneytisstöðvum í Reykjavík (úr 22 í 44) meðan íbúum borgarinnar fjölgaði aðeins um 35%. Það þýðir að íbúum á hverja stöð fækkaði um 35% svo að árið 2010 voru í Reykjavík 2.700 íbúar á hverja bensínstöð. Á Akureyri voru árið 2010 1.400 íbúar á hverja bensínstöð. ,,Það er enginn sem segir að það þurfi að vernda bensínstöðvar frekar en vídeóleigur. Þetta eru ekki menningarverðmæti sem við getum ekki verið án. Hér er fákeppnis-
markaður en þrátt fyrir það eru ótrúlega margar bensínstöðvar, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Runólfur. En hversu þétt er net bensínstöðvanna eiginlega? Í Reykjavík, Seltjarnarnesi og Kópavogi eru þær samkvæmt lauslegri samantekt ótrúlega margar. Frá höfuðstöðvum FÍB sem eru að Skúlagötu 19 er styst í dælur Atlantsolíu á lóð Aktu-taktu milli Skúlagötu og Sæbrautar. Þangað eru um 100 metrar. Í þá næstu sem er N1 í Borgartúni er um kílómetri og rúmir tveir að Olís í Ánanaustum. Sé miðað við fjarlægðir bensínstöðva við stærsta vinnustaðinn á höfuðborgarsvæð-inu sem er Landspítalinn við Hringbraut, þá eru hvorki meira né minna en 28 bensínstöðvar í innan við fimm kílómetra akstursfjarlægð. Allar selja þær eldsneyti og margar selja hverskonar skyndibita en færri eru með bílavörur eins og þurrkublöð og bílavörur eins og í gamla daga.
28 bensínstöðvar höfuðborgarsvæðisins: Orkan Eiðistorgi (4,8 km frá Landspítala). Orkan Austurströnd (5 km frá Landspítala). N1 Ægisíðu (ca 3,7 km frá Landspítala). Skeljungur Birkimel. Olís Ánanaustum. N1 Hringbraut (400 m frá Landspítala). Olís Skúlagötu. Atlantsolía Skúlagötu. Olís Snorrabraut. Atlantsolía Flugvallarvegi. Orkan Skógarhlíð. Skeljungur Skógarhlíð. Skeljungur Laugavegi. Orkan Miklubraut (sunnanmegin). Orkan Miklubraut (norðanmegin). N1 Stóragerði. N1 Fellsmúla. Olís Sundagörðum. Olís Álfheimum. Olís Háaleitisbraut. Atlantsolía Skeifunni (3,4 km frá Landspítala). N1 Kringlumýrarbraut. Atlantsolía Kópavogsbraut. Olís Hamraborg (4 km frá Landspítala). N1 Borgartúni. N1 Vatnagörðum. Orkan Klettagörðum. Atlantsolía Sprengisandi. 23
Bréf FÍB til ráðherra
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ VERÐI SVIPT NEYTENDAVAKTINNI GAGNVART TRYGGINGAFÉLÖGUNUM
F
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL
ÍB hefur sent fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra bréf með ósk um að neytendavakt Fjármálaeftirlitsins gagnvart tryggingafélögum verði tekin af því með lagabreytingu og flutt til Neytendastofu. Tilefnið er ærið og snýr ekki síst að bíleigendum. Tryggingafélögin komast upp með að hagnast óeðlilega á kostnað þeirra og hækka iðgjöld langt umfram verðlag án þess að FME lyfti litla fingri. Samkvæmt lögum ber FME að gæta hagsmuna neyt-enda gagnvart tryggingafélög-unum, en gerir það með hendur í vösum og lokuð augu. FME kvittaði upp á 10 milljarða króna arðgreiðslur Fáir hafa gleymt því að FME taldi ekkert athugavert við þá fyrirætlan tryggingafél-aganna í febrúar í fyrra að ætla að greiða út tæplega 10 milljarða króna í arð til hluthafa með því að tappa hressilega af bótasjóðum (vátrygg-ingarskuld) sem höfðu verið byggðir upp með ofteknum iðgjöld-um. Félögin voru rekin til baka með þessar fyrirætlanir, fyrir tilstilli FÍB.
24
FME hvatti til iðgjaldahækkana Í ársuppgjörum stóru tryggingafélaganna þriggja fyrir 2016 kemur í ljós að iðgjöld þeirra hafa hækkað á bilinu 9,4-10,4% frá 2015. Á sama tíma fór vísitala neysluverðs upp um 2,1%. Iðgjöld hafa því hækkað fjórfalt umfram almennar verðlagshækkanir. Samanlagður hagnaður tryggingafélaga var 7,2 milljarðar króna í fyrra og ætla þau að borga hluthöfum 5,1 milljarð króna í arð. Ekki síst er það vegna hvatn-ingar Fjármálaeftirlitsins að trygginga-
félögin hafa hvergi dregið af sér í iðgjaldahækkunum. Í tilkynningu FME þann 7. mars 2016 sagði stofnunin meðal annars: „Mikilvægt er að vátryggingarekstur félaganna standi undir þeim kostnaði sem honum fylgir. Mikilvægt er að vátryggingafélög leggi áherslu á að grunnrekstur þeirra sé ekki rekinn með tapi, þar sem félögin geta ekki reitt sig á að fjárfestingartekjur
séu stöðugar.“ Með öðrum orðum, FME hvatti tryggingafélögin til að hækka iðgjöld á árinu 2016 til að vega upp á móti ímynduðu tapi og „óvissu“ um fjármunatekjur. Ekki virðist FME hafa verið vel með á nótunum um stöðuna á fjármálamarkaðnum, þrátt fyrir heiti stofnunarinnar, því samkvæmt uppgjöri tryggingafélaganna hafa fjárfestingartekjur þeirra sjaldan verið jafn góðar og í fyrra. En að sjálfsögðu voru þau ekkert að draga af sér í iðgjaldahækkunum þrátt fyrir að ávöxtun fjárfestinga hafi verið í kringum 13% í fyrra. Og ekki reyndi FME að hemja félögin í græðginni. Almenningur borgar allt saman Allur hagnaður tryggingafél-aganna kemur með einum eða öðrum hætti úr vösum almennings og fyrirtækja. Háu iðgjöldin borga viðskiptavinir beint til félaganna. Fjárfestingartekjurnar bera svo allir með hárri vaxtakröfu skuldabréfa, aðallega ríkisskuldabréfa, svo og því okri sem stundað er með fákeppni þeirra fyrirtækja sem tryggingafélögin fjárfesta í. Enginn áhugi hjá FME á að gæta hagsmuna neytenda Þar sem samkeppni er varla til meðal tryggingafélaganna hafa þau engan hvata til að draga af sér þegar kemur að hækkun iðgjalda umfram verðlag. Við aðstæður sem þessar er eina vörn neytenda að sá aðili sem á að gæta hagsmuna þeirra geri það og slái á puttana. En Fjármálaeftirlitinu er algjörlega fyrirmunað að sinna því hlutverki. Því er skynsamlegt að losa stofnunina undan þeirri kvöð og fela Neytendastofu þetta hlutverk. Fjármagn þarf að fylgja þeirri yfirfærslu, eigi Neytendastofa að geta beitt sér sem skyldi í þessu nýja verkefni. Í raun er fáránlegt að FME skuli hafa verið falið að gæta að hags_munum neytenda gagnvart tryggingafélögunum. Það eina sem skiptir FME máli er að tryggingafélögin hagnist nógu mikið. Það er ósamrýmanlegt neytendaverndar-
hlutverkinu. Í einni sæng með bönkunum með velvild FME Sem dæmi um skeytingarleysi Fjármálaeftirlitsins um hagsmuni neytenda má nefna að Samkeppniseftirlitið lagði til í skýrslu um vátryggingamarkaðinn árið 2011 að samtvinnun tryggingafélaga og bankaviðskipta yrði hætt. Á þetta hefur ekki verið hlustað, heldur er hver og einn banki með sitt „prívat“ tryggingafélag til að þessir aðilar geti í sameiningu kreist sem mest út úr viðskiptavinum. Arion banki hefur svo gengið skrefinu lengra og keypti tryggingafélagið Vörð. Svona samkrull dregur úr samkeppni á kostnað neytenda. Fjármálaeftirlitið hefði að sjálfsögðu átt að grípa inn í þessa þróun í samræmi við tilmæli Samkeppniseftirlitsins. En gagnvart þessum hagsmunum neytenda sem öðrum setur FME kíkinn fyrir blinda augað.
að hagræða afkomunni. Það gera þau með því að áætla tjón eins og hentar hverju sinni. Með því að ofáætla tjón hækka þau í bótasjóðunum. Með því að vanáætla tjón leggja þau minna í bótasjóðina. Í gegnum árin hef-ur komið í ljós að ekkert er að marka tjónaáætlanir tryggingafélaganna. Tjón eru ýmist áætl-uð of eða van til að hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu félaganna. Til að mynda þegar illa gengur í rekstrinum, þá vanáætla félögin einfaldlega tjónin. Þá rennur minna í bótasjóðina og hægt er að sýna
Vælubíll tryggingafélaganna í föstum ferðum
Samkvæmt 6 mánaða uppgjöri VÍS í fyrra var framlag í bótasjóðina óvenju hátt. Hann stækkaði úr 23,5 milljörðum í 27 milljarða, eða um 3,5 milljarða króna. Þetta var 15% hækkun á hálfu ári þegar verðbólga var nánast engin. Tjónahlutfall VÍS var komið 84% á þessu hálfa ári. Á sama tíma var tjónahlutfallið 74% hjá Sjóvá. VÍS hefði getað sýnt töluvert meiri hagnað með því að áætla tjónin ekki svona mikil. Félaginu er það í sjálfsvald sett. Ef tjónahlutfallið hefði verið 74% eins og hjá Sjóvá – sem starfar jú á nákvæmlega sama markaði – þá hefði hagnaður VÍS orðið tæplega 900 milljónum króna meiri fyrstu 6 mánuði 2016. En klárlega hentaði þetta VÍS ekki, því þá hefði „samsetta hlutfallið“ farið niður í 95%, sem hefði sýnt að iðgjöld tryggingafélagsins væru of há. Að sjálfsögðu sér FME ekkert athugavert við þessa spilamennsku. 25
Svo lengi sem elstu menn muna segjast tryggingafélögin tapa á lögboðnum ökutækjatryggingum og kaskótryggingum. Þau kvarta undan því að „samsetta hlutfallið“ sé yfir 100%. Iðgjöld standi ekki undir tjónum og verði að hækka. Engin ástæða er til að elta þennan vælubíl félaganna. Þar kemur tvennt til. Í fyrsta lagi er rekstrarkostnaður inni í „samsetta hlutfallinu“til viðbótar við tjónakostnað. Hjá þessum félögum er rekstrarkostnaður á bilinu 22-24% af „samsetta hlutfallinu.“ Þau gætu reynt að lækka þetta hlutfall með því að lækka rekstrarkostnaðinn. En það virðist aldrei koma til skoðunar. Í öðru lagi hefur FÍB margoft bent á það hvernig tryggingafélögin leika sér með „áfyllingu“ í bótasjóðina (tryggingaskuldina) til
hagnað þrátt fyrir slæmt árferði. Tryggingafélög verða nefnilega að sýna hagnað, ann-ars fer FME á taugum. Dæmið af VÍS
Mér finnst alltaf gaman að keyra en
BÍLAPRÓFUN FÍB HEIMSÓKN
er enginn kappakstursmaður. Ég vil komast heill þangað sem ég ætla mér.“
„FÍB stendur vörð um sína menn“
- segir Geir Reynir Tómasson elsti félagi innan FÍB sem verður 101 árs í sumar og ekur enn á bíl sínum.
G
eir Reynir Tómasson tannlæknir, er elsti félagi í FÍB, en hann verður 101 árs á Jónsmessunni í sumar. Geir Reynir, sem starfaði sem tannlæknir í Reykjavík í hartnær hálfa öld, segist alltaf hafa haft töluverðan áhuga á bílum. Hann lætur ekki þennan háa aldur aftra sér frá því aka því enn í dag ekur hann þó í litlum mæli sé. „Ég festi kaup á nýjum Hyundai jeppling fyrir ári síðan sem hefur reynst afar vel. Ég átti Chevrolet áður en átti orðið erfitt með að komast inn í hann, svo ég fór að þreifa fyrir mér um kaup á bíl sem auðveldara væri að setjast upp í. Hyundai varð fyrir valinu og allt varð miklu auðveldara fyrir mig. Áhugi á bílum hefur alltaf verið til staðar, átt kannski tíu til tólf bíla um ævina, en bíllinn skiptir miklu máli í mínum huga og þá alveg sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Geir Reynir í spjallinu við FÍB blaðið. Geir Reynir segir að þrátt fyrir háan aldur hafi hann það ágætt en heyrnin hafi þó minnkað mikið. Dagarnir séu misjafn-ir, annar sé betri en hinn, en heilt yfir sé hann þakklátur fyrir það sem hann hefur 26
fengið en eiginkonuna missti hann fyrir tæpu ári síðan. Aðspurður hvort honum finnist ekkert erfitt að keyra innan borgarmarkanna í þeirri miklu umferð sem stund-um skapast segir Geir Reynir að í sjálfu sér sé það ekki vandamál, ,,ég keyri bara rólega og hef athyglina í lagi.” Keyrir sjálfur í sundlaugarnar ,,Í vetur hef ég ekki verið að keyra mikið, þetta er svona aðallega keyrslur til vina og kunningja. Svo reyni ég af öllum mætti að keyra í sundlaugarnar, annað hvort út á Seltjarnarnes eða í Vesturbæjarlaugin. Ég fer eingöngu í gufu og heitu pottana en sleppi því alveg að fara ofan í sundlaugina að læknisráði. Það hefur varla farið framhjá nokk-rum manni að umferðin hefur aukist mikið eftir því sem borgin stækkar og fólkinu fjölgar. Við Íslendingar viljum eiga okkar eigin bíl og þá eru almennings samgöngutæki að sama skapi ekki eins nýtt eins og meiri hefð hefð er fyrir erlendis,“ segir Geir Reynir. Eins og áður kom fram hefur Geir Reynir gaman að keyra en hann hefur ekkert skipulagt hvað hann
ætlar að gera í sumar. Eins og hann orðar það tekur hann bara einn dag í einu úr þessu. „Ég veit ekkert hvað ég keyri lengi úr þessu og líklega fer þeim skiptum fækkandi. Ég verð 101 árs gamall í sumar á Jónsmessunni, nánar tiltekið 24. júní, ef guð lofar. Ég keyri á meðan ég hef heilsu til og hjálpin er ekki langt undan þegar þarf að skutlast með mig. Mér finnst alltaf gaman að keyra en er enginn kappakstursmaður. Ég vil komast heill þangað sem ég ætla mér.“ Geir Reynir segir að í sér hafi blundað áhugi fyrir bílum og starfa sinna vegna hefði hann þurft á bíl að halda. Ég hef gaman að lesa um bíla og les alltaf FÍB-blaðið þegar mér berst það í hendur. Austin 8 fyrsti bílinn ,,Ég hef ekki tölu á því hvað ég er búinn að eiga marga bíla um ævina, líklega þó eitthvað á ann-an tuginn. Ég man aftur á móti vel eftir fyrsta bílnum sem ég eignaðist laust eftir seinna stríð. Hann var af gerðinni Austin 8 og með svonefndar teinabremsur og fyrir vikið svolítið þungur í akstri. Ég ók á honum
um Svíþjóð, Danmörk og niður til Þýskalands. Bíllinn mallaði þetta á kringum 70-80 km hraða og reyndist mér nokkuð vel. Ég eignaðist framhaldinu Ford Zephyr og ók á honum um alla Evrópu. Þetta var flottur bíll sem gaman var að aka. Ég hafði ekkert efni á því að eignast bíl fyrr enda fátækur námsmaður,“ segir Geir Reynir. Að loknu stúdentsprófi frá MR hélt Geir Reynir utan til náms í tannlækningum í Þýskalandi. Hann segist hafa verið með áhuga að fara í læknisfræði en það hefði verið dýrt á þessum tíma og því hefðu tannlækning-ar orðið ofan á. Námsárin í Bonn, Köln og síðar í Jena hefðu verið skemmtileg og þroskandi. Þar hefði hann litið augum bíla sem hann hafði aldrei séð áður. Á sumrin var hann í símavinnu á Íslandi. Hann opnaði tannlæknastofu í Reykjavík 1946 og lét síðan af störfum um áttræð-isaldurinn. Geir Reynir segist hafa verið
félagsmaður í FÍB um áraraðir og hann hefði notið góðrar þjónustu þaðan alla tíð. Það hefur alltaf verið gott að leita til þeirra og fá upplýsingar um bílinn og nýta þjónustuna sem samtökin veita. FÍB er góður málsvari „FÍB er góður málsvari bifreiðaeigenda og það kemur berlega í ljós þegar upp koma mál sem snúa að bílum eins og vegamál, eldsneyti og þannig mætti lengi telja. FÍB stendur alltaf vörð um sína menn. Mér finnst að núver-andi framkvæmdastjóri hafa staðið sig vel, og óska FÍB alls hins besta í sínum störfum. Þetta er nauðsynlegur félagsskapur,“
segir Geir Reynir. Hann segir ekki neinu saman að jafna bíla í dag og fyrir áratugum síðan. Bílarnir séu núna hlaðnir alls konar þægindum og öryggisþættir sem þeir búa yfir eru einstakir. Nýt þess að keyra þó vegalengdirnar séu ekki langar „Ég er mjög ánægður með bílinn sem ég ek um á í dag. Hvað það verður lengi veit ég ekki, en líklegast fer að styttast í þessu. Ég hef ágæta sjón en heyrnin er að fara hægt. Þegar ég er sestur undir stýri líður mér vel og nýt þess að keyra þó vegalengdirnar séu ekki langar. Mér finnst alla jafna ekki erfitt að keyra í borginni en þegar hált er fer maður að öllu með gát og setur öryggið á oddinn. Það skiptir miklu máli að vera á góðum dekkjum og fara varlega, aka ávallt eftir aðstæðum. Ég hef alltaf lagt það í vana að keyra bílana mína vel, hugsa vel um þá og reyni að forðast
Austin 8
sex strokka vél og mjög stöðugur á allan hátt,“ segir Geir Reynir. Hann segir bílinn alltaf hafa verið nauðsynlegur en hitt sé verra að vegakerfið hefur ekki verið til að hrópa húrra yfir. Vegirnir í gamla daga hefðu stundum verið skelfilegir en sér hefði fundist í gegnum tíðina stjórnvöld alls ekki sinna þess-um málaflokki nægilega vel. Ríkið á að setja meira fjármagn í vegakerfið „Það rennur allt of lítið fjár-magn til uppbyggingar á vegakerfinu. Ég hef mikið keyrt erlendis á minni ævi og þar er mikið betur hlúð að vegakerfinu. Vegagerð hér á landi er hálfgerð hrákasmíð. Ríkið á að setja meira fjármagn í vegakerfið, það er sparnaður í því þegar upp er staðið, bílarnir fara betur og slysum myndi Ford Zephyr
holurnar. Engin ákveðin bílategund hef-ur svo sem verið í uppáhaldi hjá mér en ég hafði samt ákveðnar taugar til Ford Zephyr en hann var með
fækka til muna. Álagið á vegakerfið hefur aukist til muna með auknum ferðamannastraumi og við verðum að horfast í augu við þetta af skynsemi,“ segir Geir Reynir Tómasson hress í bragði. 27
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
Jeep Cherokee
TOPPAR Í TORFÆRUM
N
ú þegar Ís-Band er orðinn opinber umboðsaðili FiatChrysler samsteypunnar ber því að fagna með reynsluakstri á gömlum Íslandsvini Jeep Cherokee. Framleiðslan hófst í lok árs 2013 á 2014 árgerðum en kemur nú til landsins sem 2017 árgerð. Opinberlega er þetta fimmta kynslóð Cherokee línunnar, jafnvel þótt að þriðja og fjórða kynslóðin sleppti Cherokee nafninu og tók upp nafnið Liberty í staðinn. Nýi bíllinn fer heldur djarfar leiðir þegar kemur að útlitshönnun. Skemmst er frá því að segja að meðlimir áhugamannahóps um Cherokee á Íslandi voru síður en svo hrifnir af torkennilegu, nýstárlegu útlitinu. Sennilega hefði hönnunin þurft að vera samsett úr lóðréttum og láréttum flötum og 90° hornum
28
til að vekja meiri áhuga þar á bæ. Mörgum óháðum bílaáhugamönnum, sem og öðrum sem láta sig lítt varða um bíla, þótti hins vegar óvenjulegt útlitið hitta beint í mark. Sjálfum þótti undirrituðum útlitið erfitt í fyrstu og minna nokkuð á Citroen Cactus, en vandist. Að innan Eins og þróunin er ávallt í bílaiðnaðinum er nýjasta kynslóðin stærri en sú sem kom þar á undan og er bíllinn nú orðinn svipað stór og stóri bróðirinn, Grand Cherokee, var fyrir 18 árum. Rými er gott fyrir alla 5 farþega og er fótapláss aftursætisfarþega góðum 5-6 cm meira en í beinum keppinautum (t.d. Toyota Rav4, Honda CRV og Subaru Forester) og rúmar skottið heldur þokkalega 637 lítra. Yfirbragð innréttingarinnar var einkar athyglisvert og minnti helst á evrópskan bíl. Skal engan
undra, enda er Fiat nú eigandi Chrysler grúppunnar og ljáir Bandaríkjamanninum ýmsan búnað handan hafsins. Reynsluakstursbíllinn, sem var í dýrustu útfærslunni (Limited), var full-leðraður með rafdrifin, upphituð og loftkæld framsæti og 8,4” snertiskjá sem stýrði Uconnect upplýsinga- og afþreyingarkerfinu svo fátt eitt sé nefnt. Kerfið var sérstaklega skilvirkt og auðvelt í notkun og má setja það í hæsta gæðaflokk ásamt stýrikerfi Volkswagen grúppunnar. Í akstri Í akstri svipar bílnum til evrópskra keppinauta, en vantaði þó nokkuð upp á fágunina á malbikinu. Fjöðrunin var mjúk og að mestu þægileg, en veltingur í beygjum talsverður, þó
Uppgefnar tölur fyrir staðlaðan, óbreyttan Cherokee Limited er 5,7 l/100 km í blönduðum akstri við bestu aðstæður. Limited útfærslan skartaði einnig háu og lágu drifi og alls kyns utanvegaaðstoðarstillingum sem grípa má til ef í harðbakkann slær. Til að láta reyna a.m.k. að einhverju leyti á torfæruhæfnina var ekið upp Hafrahlíð í rigningu, slabbi, snjó og hálku. Þökk sé stuttum yfirhengjum (lengd fram- og afturstuðara út frá hjólum), hárri veghæð og gleiðum aðkomu- og bakhornum kleif Cherokee-inn stóra hnullunga og bratta hryggi án þess að reka undirvagninn í undirlagið. Laus mölin og brattar, harðgrýttar brekkur báðu stöku sinnum um lága drifið sem leysti vandann án stakra vandræða og driflæsingarnar bitu fast og sendu aflið til gripmestu hjólanna þegar hin fóru að fríhjóla eða spóla. Þegar kemur að torfærum slær Jeep Cherokee keppinautunum hressilega við. Þegar á heildina er litið er Jeep Cherokee vel heppnaður. Á meðan flestir smájeppar einblína ýmist á sportlega aksturseiginleika, sparneytni, þægindi eða notagildi hefur fram til þessa vantað valkost sem leggur ofuráherslu á utanvegagetu. Ekki lengur. langt frá lausfjöðruðum amerískum fyrirrennurum. Með heildarþyngd upp á 1.835 kg er auðvelt að sjá að þar liggur rót vandans. 2,2 lítra fjögurra strokka Multijet dísilvélin kemur beinustu leið frá Fiat á Ítalíu og skilar vinnu sinni í gegnum 9 gíra ZF sjálfskiptingu frá Þýskalandi. Vélin skilar 200 hestöflum og 440 Nm af togi og eru það með bestu vélarafköstum sem eru í boði í jeppum í þessum stærðar- og verðflokki. Þar sem heil 9 hlutföll er að finna í gírkassanum er vinnslan ávallt góð, upptak snarpt og vélarsnúningur í algjöru lágmarki þegar ekið er á stöðugum umferðarhraða. Þó var nokkuð hik milli skiptinga í efstu gírum og þótti hann heldur hastur í skiptingum milli
fyrstu þriggja gíranna við kaldræsi í 2°C útihita áður en gírkassaolían náði að hitna. Eftir það gekk allt smurt. Þessi tiltekni reynsluakstursbíll kom aukinheldur með breytingapakka að verðmæti 350.000 kr. sem innihélt 10 cm hækkun og stærri dekk. Grunnbíllinn hefur 19,6 cm veghæð og er útbúinn 225/55/R18 dekkjum sem eru 28” að stærð, en reynsluakstursbíllinn var á 265/60/ R18 dekkjum sem eru 31”. Vegna þessara breytinga, sem nota bene gerði heildarásýnd bílsins talsvert vígalegri, fékk eldsneytiseyðslan að kenna á því ásamt því sem dekkjagnýr var þónokkur. Meðaleyðsla reynsluaksturs var 9,8 l/100 km (blandaður akstur).
Jeep Cherokee Verð: 8.690.000 kr (Limited útfærsla) Afköst vélar: 200 hestöfl, 440 Nm Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 5,7 l/100 km Losun CO2: 159 g/km Afköst vélar Upplýsinga- og afþreyingakerfi Torfærugeta Hátt verð Aksturseiginleikar á malbiki 29
TÆKNIMÁL BÍLAPRÓFUN FÍB
RAFBÍLAVÆÐING RAFBÍLAVÆÐINGIN - í mörg horn að líta en spennandi og áhugaverðir tímar fram undan
Á
fjölmennri ráðstefnu um rafbílavæðinguna sem Samtök rafverktaka og Samtök iðnaðarins stóðu fyrir á Grand Hótel í mars kom fram að mjög spennandi hlutir eru að gerast tengdri rafbílavæðingunni á næstu árum. Nokkur áhugaverð erindi um þetta mál voru flutt á ráðstefnunni og heilt yfir er ljóst hve þjóðhagslega hagkvæm rafbílavæðingin væri. Stjórnvöld yrðu að koma til móts við þetta verkefni með því að lækka skatta svo almenningi verði gerður kostur á að fjárfesta í rafbíl en fram kom þó að verð á þessum bílum hefur farið lækkandi síðustu misseri. Setja verði langtíma markmið og aðgerðir til að tryggja þetta. Fram kom einnig að fyrir 2020 hefur Ísland skuldbundið sig til að 10% bíla verði knúnir vistvænni orku en í dag telur bílafloti landsmanna um 240 þúsund bíla og er meðalaldur þeirra 10,6 ár. Ljóst er að rafbílavæðingin tekur áratugi og núverandi bílafloti verði áfram í notkun í mörg ár til viðbótar. Góð skipulagning og samvinna skiptir miklu máli Við skipulag nýrra byggingasvæða 30
verður að gera ráð fyrir góðu aðgengi rafbíla sem ekki er til staðar víðast hvar í dag. Að mörgu þarf að hyggja í þessari væðingu sem á eftir að vaxa mikið á næstu árum. Fram kom á ráðstefnunni að brýnt væri að allir aðilar sem kæmu að þessari uppbyggingu ynnu vel saman. Góð samvinna og skipulagning skipti afar miklu máli í þessu verkefni. Þá upplýstu fulltrúar frá Reykjavíkurborg að stefnt sé að því að borgin ætli að setja upp 58 hleðslustöðvar á 13 stöðum í miðborginni. Þetta er aðgerð sem miðar að því að yfirvöld í borginni ýti undir rafbílavæðingu hér á landi. Borgin hefur fengið 11 milljóna króna styrk frá Orkusjóði til að fara í þessa uppbyggingu en borgin leggur síðan á móti sömu upphæð til kaupa á þeim búnaði sem þarf. Ennfremur kom fram ON og N1 áforma að setja upp fjölda hleðslustöðva víðs vegar um landið en talið er að 90-95% núverandi dreifispenna ráði við fulla rafbílavæðingu. Styrkja þarf stofnkerfi á ákveðnum stöðum eftir því sem þörf kemur fram og heimtaugar í fjölbýli
stækkaðar í takt við vaxandi þörf. Böðvar Tómasson, fagstjóri og verkfræðingur hjá Efla verkfræðistofu, flutti áhugavert erindi um rafbílavæðinguna á ráðstefnunni sem fjallaði m.a. um rafbílahleðslu í þéttbýli og stöðuna í því verkefni sem fram undan er. Böðvar hefur verið að vinna að ýmsu sem lítur að rafbílavæðingunni og vann nýlega greinagerð um stöðumat og verkefni varðandi rafbílavæðinguna fyrir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið. Hann hefur ennfremur verið að gera ýmsar úttektir og hanna hvernig rafbílahleðslur er fyrir komið í bílageymslum með tilliti til öryggismála og brunavarna. Enn fremur vann hann fyrstu skilgreiningarnar á kröfum til rafbílahleðslu í deiliskipulagi, bæði fyrir Kirkjusandsreit og Vísindagarða í Vatnsmýrinni. Böðvar segir alveg ljóst hvað rafbílahleðsluna áhrærir að ráðast verði í mörg verkefni og eru hraðhleðslustöðvarnar eitt af þeim. Uppbygging nets hraðhleðslustöðva er komin á gott skrið en að sjálfsögðu þurfum við að halda áfram. Annað verkefni snýr að því að fólk geti hlaðið þar sem það er
meðhöndluð síðar í hönnunarferlinu. Einnig gefur það betri yfirsýn fyrir veitufyrirtæki varðandi skipulag dreifikerfis, aflþörf fyrir viðkomandi reit og fyrir stærra svæði. Kröfur varðandi hleðslu rafbíla hefur m.a. áhrif á orkuflutning til svæðisins, plássþörf og uppbyggingu innviða rafmagnsdreifingar, útfærslu bílastæða og samgangna og gefur framtíðar notendum upplýsingar um útfærslu svæðisins varðandi vistvænar samgöngur.
Böðvar Tómasson, fagstjóri og verkfræðingur hjá Efla verkfræðistofu
praktískt og flestir vilja geta gert það heima hjá sér. Þar eru bílarnir til lengri tíma, yfir nótt, og það er því eðlilegt að fólk geti hlaðið sína bíla heima. Gert sé ráð fyrir rafbílahleðslu í skiplagi og hönnun bygginga „Það eru ákveðin vandamál til staðar varðandi þennan hleðslumöguleika í dag þar sem alls ekki allar nýbyggingar hannaðar til rafbílahleðslu. Það verður að teljast ákveðin galli. Þegar fólk er að fara inn í framtíðina og kaupa sér rafbíl þá getur það staðið frammi fyrir því í dag að ekki sé hægt að hlaða nema lítið hlutfall bíla í bílageymslunni. Það er mjög bagalegt og við þurfum virkilega breyta því þannig að hús verði byggð með réttum hætti hvað þetta varðar. Markmiðið er að hægt verði að tryggja hleðslu rafbíla án mikils kostnaðar fyrir þá sem þess óska. Það er einungis hægt með því að huga að innviðum rafbílahleðslu frá byrjun. Það gerir náttúrlega kröfu á hönnuði, verkkaupa, byggjendur og alla aðila sem að þessu koma. Til að leiðrétta þetta vandamál legg ég til að rafbílahleðsla verði einnig tekin upp á skipulagsstigi. Með því að gera ráð fyrir því strax á skipulagsstigi er betur tryggt að rafbílahleðsla verði
Í deiliskipulagi geta menn verið að setja fram kröfur til rafbílahleðslu m.v. hvernig reiturinn er samsettur, hvernig blöndun er á starfsemi á reitnum og svo framvegis. Ef um er að ræða fjölbýlishúsabyggð þá erum við að fá fram toppa notkunar á ákveðnum tímum en í blandaðri byggð getum við reiknað með að rafmagnsnotkunin dreifist betur, sem hefur áhrif á dreifikerfið,“ segir Böðvar. Hagkvæmt fyrir kerfið að rafbílahleðsla aukist Böðvar segir áhugavert sem fram hafi komið í erindi frá Veitum á ráðstefnunni að í heildina sé það mjög hagkvæmt fyrir dreifikerfið að rafbílahleðsla aukist vegna þess að það nýtir kerfið betur. Það er stórt hlutfall rafbílaeigenda sem hleður bílana sína á nóttinni á meðan það er þá lítil notkun annars staðar. Þetta hefur auðvitað áhrif á hámarkstoppa rafmagnsnotkunar, sem koma t.d. þegar fólk kemur heim á daginn og stingur bílnum í samband. Það hefur áhrif á uppbygginguna á kerfinu að einhverju leyti líka. Það þarf einhvers staðar örugglega að spýta í og hafa dreifikerfið aðeins öflugra og byggja það upp með tilliti aukinnar raf_ bílaeignar. Oft mikill skortur á afli í eldri fjölbýlishúsum Í eldri fjölbýlishúsum er oft mjög mikill skortur á afli. Það gerir það að verkum að fólk er að leita lausna og vantar aðstoð, en það skortir leiðbeiningar um hvaða skref þarf að taka til að koma upp rafbílahleðslu.
Ég held að það séu flestir aðilar sem eitthvað tengjast byggingum sem hafa fengið samtöl og spurningar um það hvernig hægt er að leysa hleðslumál í fjölbýlishúsum. Húsfélög eru að glíma við þetta út um allan bæ. Stundum getum við verið með einfaldar lausnir þegar heildar aflþörfin er ekki orðin mikil. Það er þá hægt að setja upp hleðslustöðvar sem tala saman við miðlægt kerfi. Þá er mjög mikilvægt að hugsað sé um heildar lausn þannig að hver og einn bíleigandi sé ekki að kaupa sína sjálfstæðu stöð. Ef stöðvarnar tala ekki saman þá er mjög erfitt að stýra aflinu til bíla sem gerir það að verkum að meiri hætta er á útslætti í kerfinu eða kannski bara einn bíll sem fær allan strauminn og annar ekki. Það þarf því að vera samræmd nálgun í fjölbýlishúsum varðandi lausnir. Síðan getur það komið upp að fjöldi rafbíla er orðinn það mikill að rafmagnsinntakið dugi ekki til og að dreifing gerir það bara að verkum að allir fái bara mjög lítinn straum. Þá gæti þurft að ráðast í að fá nýtt inntak í húsið og það getur verið mikill kostnaður í því fólginn. Þessi startkostnaður getur hlaupið á mörgum milljónum og það getur verið erfitt fyrir t.d. húsfélög að fjármagna slíkt. Þar sem rafbílahleðsla og rafbílavæðing er komin lengra eins og í Noregi og Svíþjóð eru veittir styrkir til þess að koma upp hleðslustöðvum í eldri húsum. Það er eitthvað sem væri mjög æskilegt að koma upp hér á landi til þess að tryggja orkuskipti í samgöngum,“ segir Böðvar. Rétt hönnun sparar milljónir Böðvar segir ennfremur varðandi nýbyggingar að tiltölulega auðvelt að hanna nýbyggingar þannig að úr þessu sé bætt. Tryggja þarf lágmarkshleðslu í byrjun fyrir eitthvað ákveðið hlutfall af bílum og gera ráð fyrir því að hægt sé að fjölga því með tímanum. Þetta þýðir í raun og veru bara aðeins stærra inntak inn í húsið og gera ráð fyrir rafmagnstöflu sem hægt er að stækka auðveldlega þegar notkun eykst. Auk þess þarf að huga að lagnaleiðum að bílastæðum og fyrirkomulagi innanhúss. Þessar viðbótar ráðstafanir gera bara kröfu um aðeins meiri langtímahugsun varðandi framtíða notkun 31
BÍLAPRÓFUN FÍB TÆKNIMÁL
byggingarinnar. „Ef byggingar eru hannaðar með þessum hætti er það bara brot af því sem það kostar að breyta eftir á. Þannig að það þarf í raun bara smá hugafarsbreytingu og mögulega smá stuðning í byggingareglugerð og leiðbeiningum til þess að tryggja að við séum að hanna byggingar með réttum hætti,“ segir Böðvar. Framtíðin er rafvædd Böðvar segir spennandi hluti að gerast í rafbílavæðingunni og margir framleiðendur að koma með rafbíla á mjög viðráðanlegu verði sem hafa mjög góða raundrægi, um 250-300 km. Þá erum við komnir á þann stað þar sem við þurfum í raun og veru ekki stærri rafhlöður fyrir alla almenna notkun. Það þýðir samt að við þurfum að hlaða einu sinni á leiðinni til Akureyrar eða eitthvað slíkt, en slíkt mun ekki taka langan tíma með nýjustu hraðhleðslustöðvunum. Það borgar sig varla að kaupa mikið stærri rafhlöður vegna þess að í þau fáu skipti sem við þurfum að ferðast svona langt þá er miklu hagkvæmara að samfélagið komi sér upp öflugu neti hraðhleðslustöðva sem dugar þá fyrir þessi einstöku skipti. „Nú geta langflestir farið að velja sér rafbíl og ég finn fyrir mikilli hugarfarsbreytingu hvað það varðar. Hraðhleðslu-stöðvar verða öflugri með tímanum þannig að við getum alltaf hlaðið hraðar svo við getum ekki annað sagt en áhugaverðir tíma séu fram undan. Það er alveg ljóst hvert við erum að stefna með samgöngur, þær verða rafvæddar, en spurningin aðeins hversu fljótt okkur tekst að koma þessum orkuskiptum á. Við þurfum hugsa til umhverfismála og þeirra skuldbindinga sem við höfum undirgengist varðandi mengun og minnkun á losun á kolefni, ein einnig þjóðhagslegum sparnaði. Rafbílar eru yfirleitt miklu þægilegri að keyra en eldri tækni og rekstrarkostnaður mun lægri. Ég hef ekki hitt neinn sem hefur keypt sér rafbíl, sem hefur áhuga á að fara til baka í gamla tímann og fá sér bíl með pústkerfi, gírskiptingu og tímareim. Það verður úrelt með tímanum og ég held að fólk sem er núna að kaupa nýjan bíl ætti alvarlega að hugsa um að fá sér rafbíl,“ segir Böðvar Tómasson. 32
GOLF OG AFTUR GOLF SÁ VINSÆLASTI Í EVRÓPU
G
olf og aftur Golf – sá vinsælasti í Evrópu 2016 Það er nú staðfest að Volkswagen Group er komin fram úr Toyota sem stærsti bílaframleiðandi heims með sína Fólksvagna, Audi, Skoda, Seat og fleiri tegundir. Árangurinn er ekki síst að þakka velgengni VW á hinum risastóra Kínamarkaði. Evrópa er þó enn sem fyrr heimasvæði Volkswagen og þar hefur Volkswagen merkið ótvíræða yfirburði, sérstaklega þó VW Golf. Toyota er þó enn sem áður mest selda einstaka bifreiðategund veraldar þótt hún eigi vissulega nokkuð í land með að verða söluhæsta bifreiðategundin í Evrópu - að Íslandi þó undanskildu. Á Íslandi hefur Toyotan ótvíræða yfirburði á fólksbílamarkaðinum. Í fyrra (2016) voru nýskráðar hér 3.069 Toyota fólksbifreiðar en 1.605 Volkswagen fólksbifreiðar. Síðasta ár var talsvert tímamótaár í Svíþjóð því að þá gerðist það í fyrsta sinn í meir en 50 ár að Volvo var ekki með flestar nýskráningar, heldur var það Volkswagen Golf sem ýtti Volvo niður í annað sætið. Þetta þótti sumum Svíum vondar fréttir en öllum þótti þeim þetta mikil tíðindi. En hvað með önnur Evrópulönd? Lítum nánar á það. Belgía: Volkswagen Golf
Volkswagen Golf er vinsælasti fólksbíllinn (14.519). Næstur honum er Renault Clio (11.600).
Stóra Bretland: Ford Fiesta
Þýskaland: Volkswagen GolfHeimabílarnir frá Volkswagen eru í efstu sætunum. Golfinn er efstur (185.654). Næstur er VW Passat (79.216). GM-bíllinn Opel Astra er í fimmta sæti (65.197) og Opel Corsa í því tíunda (55.196). Danmörk: Peugeot 208
Peugeot gerir það einna best hlutfallslega í Danmörku af Evrópuríkjum. Söluhæsti bíllinní fyrra var Peugeot 208 (9.381). Næstur söluhæstur var Volkswagen Up (7.361), Eistland: Skoda Octavia
Vinsælasti bíllinn í Eistlandi var Skoda Octavia (1.139). Næstur var Toyota Avensis (838). Finnland: Skoda Octavia
Finnar kunnu líka að meta Skódann . Þar var Skoda Octavia söluhæst (5.530). Næst á eftir kom Nissan Qashqai (4.663).
Frakkland: Renault Clio
var sá söluhæsti á Ítalíu (147.262). Næstur er Lancia Ypsilon (65.647).
Pólland: Skoda Octavia
Lettland: Nissan Qashqai
Frakkar kunna auðvitað vel að meta sína eigin bíla. Þar var Renault Clio söluhæstur (112.118). Næst söluhæstur var Peugeot 208 (97.817). Rúmensk-franski bíllinn Dacia Sandero er eini erlendi bíllinn sem náði inn á lista tíu söluhæstu bílanna í Frakklandi í fyrra. Grikkland: Toyota Yaris
Toyota Yaris var söluhæstur í Grikklandi (5.307). Næstur kom Opel Corsa (3.845). Írland: Hyundai Tucson
Hyundai Tucson var söluhæstur á Írlandi í fyrra (7.425). Næstur kom Volkswagen Golf (5.143). Ítalía: Fiat Panda
Heimaframleiddi bíllinn Fiat Panda
Nissan Qashqai er vinsæll í Lettlandi (772). Næst vinsælastur var Skoda Octavia (577).
Skoda er tvöfaldur sigurvegari. Efstur varð Skoda Octavia (16.960). Næstur kom Skoda Fabia (15,070). Rúmenía: Dacia Logan
Litháen: Fiat 500
Fiat 500 reyndist lang vinsælasti bíllinn í Litháen (2.459). Sá næst vinsælasti var Nissan Qashqai. (794).
Heimabílarnir frá Dacia eru á toppnum. Dacia Logan er efstur (16.911). Númer tvö er Dacia Duster (5.251). Spánn: Seat Leon
Holland: Volkswagen Golf
Volkswagen Golf var efstur (10.858) en aðeins 117 nýskráningar skildu milli hans og þess næstvinsælasta sem var Renault Clio (10.741).
Heimabílarnir frá Seat eru vinsælastir. Efstur er Seat Leon (33.494). Næstur er Seat Ibiza (31.754). Svíþjóð: Volkswagen Golf
Noregur: Volkswagen Golf
Volkswagen Golf er efstur (12.259). Næstur Mitsubishi Outlander (5.687).
Þetta kom mörgum Svíum á óvart eftir hálfrar aldar slímusetu Volvo í efsta sætinu. Volkswagen Golf varð efstur (22.088) og ýtti Volvo V70/V90 (17.270) niður í annað sætið. 33
SKODA KODIAQ
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
VELKOMIN VIÐBÓT
N
ú þegar Skoda Kodiaq er að koma til landsins má telja með nokkurri vissu að verði sá bíll verði geysivinsæll. Í lok síðasta árs fór hins vegar fram kynningarakstur á bílnum á Mallorca á Spáni og var blaðamaður FÍB blaðsins með í för. Við fyrstu kynni er augljóst að um Skoda er að ræða, jafnvel þótt þeir hafi aldrei áður framleitt jeppa. Hann er byggður á hinum margreynda og fjölhæfa MQB undirvagni Volkswagen samsteypunnar, líkt og flest allt sem rúllar af færiböndum grúppunnar þessa dagana. Útlitið er vissulega umdeilanlegt og féll ekki sérstaklega í kramið hjá undirrituðum. Líkt og með Superb þótti skotthlerinn óþarflega skáhallandi sem fórnar þannig plássi fyrir stærri bagga. Tvískipt framljósin þóttu ekki sérlega aðlaðandi og línurnar og smáatriðn helst til flókin. Jafnvel þótt Peter Olah, einn af
34
hönnuðum Kodiaq, vildi meina að hönnunin væri stílhrein og einföld var undirritaður ekki sannfærður - en lesendur og hugsanlegir kaupendur verða víst að eiga lokaorðið um það. Bíllinn er stærri en Octavia á alla kanta en, þótt ótrúlegt megi virðast, styttri en flaggskipið Superb. Þá er hægt er að fá Kodiaq í sjö sæta útfærslu, ólíkt Superb. Kodiaq er talsvert mikilvægur bíll fyrir Skoda í þungri samkeppni á smájeppamarkaðnum og mun hann t.a.m. koma til með að vera seldur í Kína. Kína er stærsti staki markaður Skoda í dag og hefur verið síðan 2010. Skoda bílar voru fyrst seldir í Kína 2007 og hafa síðan selt 2 milljónir bifreiða þar í landi.
raun fór reynsluaksturinn fram að miklu leyti við þær aðstæður sem Kodiaq-inn verður hvað algengastur; í innanbæjartraffík og úti á þjóðvegum.
Í akstri
Til prófunar voru tvær útfærslur sem seldar verða á Íslandi, báðar með 2.0 lítra TDI dísilvélar. Fyrri skilaði 150 hestöflum og 340 Nm af togi í gegnum sex gíra beinskiptingu og sá seinni 190 hestöflum og 400 Nm í gegnum sjö
Þótt ætla megi að Kodiaq sé vel sniðinn að íslensku landslagi reyndi ekki á torfæruhæfileikana á silkimjúku malbiki Mallorca. Í
Bíllinn er mjög áþekkur öðrum Skoda og Volkswagen bílum í akstri, enda deila þeir býsna mörgum hlutum í drifbúnaði, yfirbyggingu og innréttingu. Stýri lék létt í höndum ökumanns, vind- og dekkjagnýr var í lágmarki og veltingur í beygjum óverulegur á skynsömum hraða. Engin blöð eru brotin þegar kemur að fjöðrunarbúnaði; MacPherson fjöðrun að framan og fjölarma að aftan. Þægilegur fremur en skemmtilegur akstursbíll þegar á heildina er litið.
þrepa DSG tví-kúplinga-sjálfskiptingu. Hægt er að fá 150 hestafla vélina með DSG kassanum, en hafandi prófað þá tvennu í minni, léttari systurbílnum Volkswagen Tiguan þótti aflið nokkuð magurt þegar kom að framúrakstri á þjóðvegahraða. Auk þess að beinskipti gírkassinn er léttari í vigt er auðveldara að stýra vinnslunni hafi maður fullt vald á kúplingsfetli og gírstönginni. Upptakið úr kyrrstöðu er hins vegar vel viðunandi, enda togið talsvert frá lágum snúningi. Aflið var hins vegar feikna fínt í kraftmeiri bílnum og smellpassar DSG gírkassinn við karakter vélarinnar. Beinskiptingin var létt, þægileg og nokkuð viðnámslítil, en þó ferskur blær inn í heim sífellt fjölgandi sjálfskiptinga og deyjandi
beinskiptinga. DSG gírkassinn slær hins vegar enn og aftur í gegn og má vart taka eftir skiptingum. Einn smávægilegur hnökri uppgötvaðist þegar tekin var vitlaus beygja inn á lokaðan, aflíðandi sveitaveg. Þegar skipt var í bakkgír í brekku rann bíllinn óþægilega langt áfram áður en tannhjólin bitu saman. Litlu mátti muna að nefið rækist í grindverk, en slapp þó naumlega. Skv. verðlista Skoda á Íslandi þegar greinin er skrifuð byrjar verðið á 150 hestafla bílnum í 5.460.000 kr og 190 hestafla bílnum í 6.950.000 kr. Einnig verður hægt að fá bílinn með 1.4 TSI bensínvél á Íslandi, en hún var því miður ekki tekin til kostanna
að þessu sinni. Til að halda kostnaði niðri er drifbúnaðurinn ekki ýkja flókinn. Miðlægt mismunadrifið er með vökvakúplingu sem dreifir afli milli fram- og afturhjólanna þar sem við taka opin drif hvort á sínum endanum. Rafstýrður skriðvarnar- og hemlunarbúnaðurinn læsir síðan einstökum hjólum eftir því sem þörfin krefur. Engin vægisdreifing (e. Torque vectoring) eða lágt drif eru til staðar, enda dýr búnaður og ólíklegt að margir eigendur aki við svo krefjandi aðstæður að hann vanti. Fjórhjóladrifið er til staðar þegar á reynir og fyrrnefndar rafstýrðar driflæsingar tryggja að gamanið haldi áfram þótt ekki öll dekkin hafi grip. Veghæðin er gefin upp 188 mm og er viðunandi, en ekki framúrskarandi í þessum stærðarflokki. 35
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
SKODA KODIAQ
Innrétting og tækni Innra rýmið er rúmgott og útsýni úr bílnum er ágætt. Með aukinni hjálp lagningarmyndavéla og sjálfvirkrar bílastæðaaðstoðar er því leikur einn að leggja bílnum í þröng stæði. Fyrstu fimm sætin eru rúmgóð fyrir fullvaxna einstaklinga en sætin tvö í öftustu sætaröðinni eru merkilega bærileg fyrir tvo fullvaxna í viðbót - þó ekki nema í stuttan tíma. Fyrir börn eru þau hins vegar vegleg viðbót og fullkomlega ástættanleg. Farangursrými rúmar alls 765 lítra, en allt að 2000 lítra þegar sætaröðin í miðjunni er lögð niður. Öll áferð, efinisval og útlit er áþekkt öðrum Skoda bifreiðum og er umhverfið því kunnuglegt og ánægjulegt. Stór snertiskjárinn í miðju bílsins er auðveldur í notkun og virkaði leiðsögukerfið vel um vegakerfi Mallorca. Columbus upplýsinga- og afþreyingakerfið tengist farsímum auðveldlega í gegnum Bluetooth eða SmartLink og inniheldur 64 gb gagnapláss. Hægt er að breyta bílnum í heitan Wi-Fi reit þannig að allir farþegar geti tengst og vafrað á netinu meðan á ferðalagi stendur. Simply Clever
losanleg ljós í farangursrými sem má nota sem vasaljós, regnhlífar í framhurðum líkt og finna má í Rolls Royce, borð með glasahöldurum á sætisbökum framsæta og rúðusköfu í eldsneytisáfyllingarloki. Þá stíga fram gúmmílistar sem umlykja lóðréttan kant hurðanna þegar þær eru opnaðar og koma þannig í veg fyrir hvimleið og óþarflega dýr tjón ef maður nú óvart ,,hurðar” næsta bíl á bílastæðinu. Loks má draga fram eins konar flipa á höfuðpúðum aftursæta, ekki ósvipaða þeim er fyrirfinnast í sumum flugvélum, og er hægt að halla sér upp að þeim og fá sér smá kríu. Einfaldar, ódýrar lausnir sem erfitt er að láta sér detta í hug, en hálf ómissandi þegar maður hefur komist í kynni við þær.
Einkunnarorð Skoda, Simply Clever, eru ekki valin af ástæðulausu, því aragrúa snjallra lausna er að finna í bílnum. Sem dæmi má nefna
Segja má að Skoda Kodiaq er velkomin viðbót í smájeppaflóruna og kemur hann fílefldur inn á markaðinn á einkar samkeppnishæfu verði.
36
Skoda Kodiaq Verð: Frá 5.460.000 (150 hö, bsk) og 6.950.000 (190 hö, DSG) Afköst véla: 150 hestöfl, 340 Nm og 190 hestöfl, 400 Nm Eldsneytisnotkun (skv. framleiðanda): 5,4 l/100 km og 5,7 l/100 km Losun CO2: 141 g/km (150 hö, bsk) og 150 g/km Nýting á plássi Sparneytni Gæðatilfinning “Simply Clever” Flókin og misfögur hönnun ytra byrðis Heldur lág veghæð Afl afkastaminni vélar við hærri snúning
UNGMENNI KYNNTU SÉR BÍLAGREINAR HJÁ BL
U
ngmenni kynntu sér bílagreinina hjá BL bauð ungmennum fyrir skemmstu í heimsókn til að kynna sér þau störf sem bjóðast í bílgreininni. Yfir daginn í heild komu um hundrað og fimmtíu manns í heimsókn á verkstæði BL, ungmenni, foreldrar, afar og ömmur ásamt námsráðgjöfum í grunn- og menntaskólum á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Trausta Björns Ríkharðssonar verkstæðisformanns var heimsóknin ánægjuleg, meðal annars vegna þess hve starfsmenn BL fengu margar spurningar frá gestum, ekki síst krökkunum og námsráðgjöfum skólanna um störfin sem greinin hefur að bjóða. „Þetta eru ekki bara bilanagreiningar, viðhald og viðgerðir, heldur einnig þjónustu vegna fyrirspurna gegnum síma, afgreiðsla varahluta, sala bíla og ýmis skrifstofustörf,“ segir
Trausti, sem kveðst einnig sérlega ánægður með heimsókn námsráðgjafanna. Vakning meðal stúlkna „Við höfum lagt talsverða áherslu á að kynna námsráðgjöfum skólanna þau tækifæri sem BL býður þegar kemur að vinnustaðasamningum, en árlega bjóðum við á bilinu tíu til fimmtán áhugasömum nemendum samning sem standast nauðsynlegar kröfur BL,“ segir Trausti. Námsráðgjafar hafa m.a. það hlutverk að kynna nemendum hin ýmsu svið atvinnulífsins og að þeirra mati hafa undanfarnar nemendaheimsóknir til BL haft jákvæð áhrif. „Sérstaklega er ánægjulegt hve stúlkurnar sýna mikinn áhuga þegar þær fá kynningu á tækifærunum sem atvinnugreinin hefur að bjóða. Margar höfðu alls ekki gert sér grein fyrir fjölbreytileikanum og þeim vinnuaðstæðum sem nú tíðkast. Bílgreinin er mjög tæknivædd grein sem hentar
mjög vel báðum kynjum, eins og reyndar öll störf gera. Öll störf eru kvennastörf.“ Frekari bylting framundan Trausti segir nemendaheimsóknirnar einnig hafa jákvæð áhrif á starfsfólk BL. „Líklega hafa heimsóknirnar verið eitt besta hópefli sem ég hef tekið þátt í. Þær hafa vakið okkur til aukinnar meðvitundar um mikilvægi starfa okkar, greinarinnar sem slíkrar og það hversu mikið hún hefur þróast undanfarin ár, sérstaklega síðustu tuttugu ár. Á næstu fimm árum munum við sjá sambærilega stökkbreytingu og varð síðustu tuttugu ár. Bílgreinin er því klárlega spennandi vettvangur fyrir áhugasöm ungmenni sem vilja tileinka sér þann nýja tækniheim sem við eigum eftir að upplifa á næstu árum,“ segir Trausti Björn Ríkharðsson, verkstæðisformaður BL.
37
BÍLAPRÓFUN FÍB BÍLAPRÓFUN FRÉTTIR FÍB NEYTENDAMÁL
YFIR 400 ÞÚSUND PANTANIR HAFA BORIST Í
T
TESLA MODEL 3
esla ætlar í júlí í sumar að hefja framleiðslu á Tesla Model 3. Ætlunin er í byrjun að framleiða um fimm þúsund bíla á viku og á næsta ári verði framleiðslan kominn í tíu þúsund eintök.Fyrstu bílarnir verða síðan afhentir nýjum og spenntum eigendum á miðju ári 2018. Mikil eftirspurn er eftir þessum bílum en nú þegar hafa borist yfir 400 þúsund pantanir. Tesla Model 3 verður fyrsti bíllinn frá Tesla sem mörgum verður gert kleift að kaupa en verðið er áætlað frá tæpum fjórum milljónum króna.
Bíllinn á að komast 350 km vegalengd á fullri hleðslu og hann nær 100 km hraða á undir sex sekúndum. Elon Musk forstjóri Tesla segir fyrirtækið stefna að því að framleiða
um 500 þúsund bíla fyrir lok 2020. Þess má geta að Tesla ræðst í byggingu á risa rafhlöðu verksmiðju 2014 í nágrenni Sparks í Nevada. Á næsta ári er vonast til að hún hafi náð fullri afkastagetu.
YFIR ÞRIÐJUNGUR ÖKUMANNA TELUR EFTIRLIT LÖGREGLU HAFA MIKIL ÁHRIF Á AKSTURSLAGIÐ
Ý
msar athyglisverðar niðurstöður koma fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Samgöngustofu um aksturshegðun almennings. Könnunin, sem var mjög yfirgrips mikil var unnin dagana 1.-14. nóvember á síðasta ári. Um netkönun var um að ræða sem send var til 1.486 manns og varsvarhlutfall 64,4%. Við spurningunni hversu miklum tíma telur þú þig sem ökumann verja við akstur að meðaltali á dag í umferðinni kemur fram að 16% þeirra verja meira en klukkustund undir stýri. Þegar rýnt er enn frekar í könnunina kemur fram að 4% ökumanna hafa á síðustu sex
38
mánuðum dottað við akstur. Afgerandi niðurstaða er í könnuninni þegar þátttakendur eru spurðir hvort þeir hafi á síðustu sex mánuðum orðið varir við skemmdir á götum eða vegum. 79% svara spurningunni játandi, 16% stundum, og 3% sjaldan. Um 32% ökumanna telja að eftirlit lögreglu í umferðinni hafi frekar mikil áhrif á aksturslag þeirra. 27% svöruðu spurningunni að það hefði hvorki mikil né lítil áhrif. Þegar spurt var var um aukin ökuréttindi, þ.e. réttindi til að aka leigubíl, vörubíl og eða rútu kemur fram að 18% hafa slík réttindi undir höndum. Einar Magnús
Magnússon hjá Samgöngustofu segir margt vekja athygli í þessari könnun sem stofnunin lét vinna fyrir sig. „Það sem kemur fyrst upp í hugann er að karlmenn er miklu líklegri til að viðhafa áhættuhegðun en konur. Við höfum líka ákveðnar áhyggjur af þeim aldurshópi sem búnir eru að vera á bráðabrigðaskírteinum og eru að fá varanlegt ökuskírteini í hendurnar. Þá er eins og að fari af stað hættulegt sjálfsöryggi sem þarf greinilega að fylgjast með. Það er með afgerandi hætti hægt að segja það að hinn almenni borgari vill að það sé gott og öflugt umferðareftirlit lögreglu. Það er greinilega kallað eftir því í ákveðinni niðurstöðu í könnuninni. Við höfum látið vinna þessa könnun fyrir okkur undanfarin ár en þó eru margar nýjar spurningar í þessari könnum m.a út af breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu,“ segir Einar Magnús hjá Samgöngustofu.
BOLT RAFBÍLLINN ER BÍLL ÁRSINS Í N.AMERÍKU
Chevrolet Bolt (Opel mjög hóflegt og þar með viðráðanlegt Emi- í Ampera-e í Evrópu). Það l brunahreyfill, verð. Hann127 varhö. einiGeely rafbíllinn 7 hefurvalsins. ekki verið á almennum er nefnd 57 bandarískra og grand úrslitum Allir aðrir þeir bílar hér til þessa, en það gæti voru kanadískra bílablaðamanna bílamarkaði sem komust á verðlaunapallinn Hafinn er hér á landi 12 mánaða kum, Starfsfólk annastá þessu breyst þvíhefðbundnum að áætlað verðbrunahreyflum. er hagstætt semBrimborgar velur bíl ársins með reynsluakstur á sex fólksbílum af um bílana ogsvæði heldurheimsins. þeim við Bolt meðan við stærð og búnað. Semvoru venjhlaut miðað Sérstakar viðurkenningar gerðinni Geely Emigrand 7. Það sem á tilrauninni titilinn stendur.með Egill364 Jóhannsson bensínknúinn bíll fyrir gæti hann stigum. Í ulegur einnig veittar bílum notagildi. er sérstakt við þetta er það að bílarnir forstjóri Brimborgar sagði í samtali umstórfjölskylduvagninn 3,8 millj. kr. en sem bíll öðru sæti kom GenesisviðG90 kostað Þaurétt hlaut verða knúnir hreinu metanóli sem FÍB blaðið aðfrá bílarnir, sem koma frá knúinn endurnýjanlegri orku ogjeppaþá án og Hyundai með 105 stig. Í Chrysler Pacifica. Sérstök samkvæmt var tilkynnt framleittenju verður í verksmiðju Carbon Kína, eru búnir brunahreyflum (benaðflutningsgjalda og VSK gæti verðið því þriðja með 101 stig varð Volvo S90. pallbílaverðlaun hlaut svo Honda við opnun bílasýningarinnar sínvélum) sem sérstaklega hafa verið verið rétt rúmlega 2,8 millj. kr. Þeir kostir sem skiluðu Bolt rafbílnum Ridgeline. í Detroit fyrr í vetur hver aðlagaðar því að ganga fyrir hreinu í efsta sætið voru að mati dómendanna væri bíll ársins í Bandaríkjunum og metanóli. Í Kína væri komin talsverð langt drægi, stuttur hleðslutími og Kanada þetta árið. Það er nýi rafbíllinn reynsla á notkun metanóls sem eldsneyti á bíla og forvitnilegt verði að sjá hvernig reynslan verður hér á landi. ýverið tóku í gildi nýjar og hertar reglur við notkun farsíma bílaframGeely er kínverskur undir stýri á Englandi, Skotlandi og Wales. Ökumenn í þessum er leiðandi. Á Vesturlöndum löndum, sem ekki nýta sér handfrjálsan búnað við notkun Geely best þekkt sem eigandi farsíma, standa nú frammi fyrir mun harðari viðurlögum en áður. Við Volvo fólksbílaframleiðsl-unfyrsta brot nemur sektin 27 þúsund krónum og sex í en eftir nar refsistig í Svíþjóðfærast og víðar, ökuferilsskrá. Við endurtekið brot hækkar sektin í 130 keypti þúsundVolvo krónur að Geely af Ford og ökuleyfissviptingu í sex mánuði Nýju lögin að þvísjaldan að ökumenn hafa miða Volvobílar eða aldrei Recycling verið vinsælli eru semÍ aldrei fyrr í noti ekki farsíma án handfrjálsbúnaðar meðan á akstriogstendur. International í skemmstu sérflokki fyrir öryggi.11 milljónir könnun sem gerð var opinber fyrir viðurkenndu Svarts-engi að viðhafa Grindavík. Geely Emigrand 7 er milljónir fólksbíll af ökumanna talað í síma á síðustu tólf mánuðum.Fimm Bílaumboðið Brimborg stallbaksgerð. ívið stærri og stýri, plássökumanna voru á samaflytur tíma inn myndaðir við notkun á farsíma undir bílana sex og sér um þessa tilraun meiri en VW Golf. Lengdin er 4,63 langflestir á aldrinum 17-24 ára. sem nú er verið að hleypa af stokm og breiddin er 1,79 m. Vélin er 1,8
BÍLAPRÓFUN FÍB NEYTENDAMÁL
6 metanólbílum reynsluekið á Íslandi í eitt ár
V
BRETAR TAKA HART Á NOTKUN FARSÍMA UNDIR STÝRI
N
28
39
BÍLAPRÓFUNFÍFÍ B BÍLAPRÓFUN B
BMW i3
RAFBÍLL MEÐ EÐA ÁN LJÓSAVÉLAR
B
MW i3 er hreinræktaður rafbíll. Það þýðir að hann er knúinn milliliðalaust af rafmagni. Hann fæst með eða án innbyggðrar bensínrafstöðvar sem fer sjálfvirkt í gang þegar líþíumrafhlöðurnar eru að tæmast. Þegar það gerist fer straumurinn frá rafstöðinni rakleitt til rafmótorsins sem snýr afturhjólunum. Bensínvélin sem er tveggja strokka og ættuð frá BMW mótorhjóli, skilar engum af þeim snúningshestöflum sem hún framleiðir til drifhjólanna í gegn um gírkassa, enda er enginn slíkur í þessum bíl fremur en flestum öðrum rafbílum. BMW i3 er yfirleitt talinn til smábíla þótt hann sé nær því að vera fimm manna millistærðarbíll. Í honum er ágætis pláss, sérstaklega í framsætum og aðgengi að aftursætinu er greitt og auðvelt, ekki síst vegna þess að afturdyrnar eru svokallaðar sjálfsmorðsdyr (suicide door) sem opnast að framanverðu og enginn B-stólpi hindrar aðgengið. 40
BMW i3 er sérstæður í útliti og ólíkur öðrum BMW bílum. Felgurnar eru 20 tommur með lágprófíl hjólbarða með lágri mótstöðu.
Tímamótabíll i3 er að mörgu leyti tímamótabíll. Hann er sérstakur í hönnun, útliti og efnisnotkun og það langdrægur að á honum má komast hvert sem er, norður – suður – austur - vestur. Á rafmagninu einu má alveg reikna með að komast amk. 200 kílómetra og ef bensínrafstöð er til staðar kemst hann 130 km til viðbótar, það er að segja ef níu lítra bensíntankurinn var fullur í upphafi ferðar. Bíllinn er mjög léttur þrátt fyrir rafhlöðusamstæðuna, sem byggð er ofan í tvöfalt gólfið. Það er fyrst og fremst vegna þess að hann er byggður úr áli og koltrefjaefnum og er þar með líka laus við það að ryðga og tærast. En byggingarefnið er því miður dýrt og BMW i3 kostar talsvert, en á móti kemur að hann er mjög líklegur til að geta enst vel og lengi. BMW i3 er sérlega notalegur bíll í akstri. Hann er eldsnöggur í viðbragði enda 170 hestafla og sérlega hljóðlátur, nánast hljóðlaus í rólegri þéttbýlisumferðinni og aðeins lágur
vegdynur heyrist úti á vegum. Við reynsluókum þessum tímamótabíl sl. haust í góðviðri og hlýindum. Þá tókum við honum með fullhlaðna rafgeyma og ókum honum hingað og þangað um höfuðborgarsvæðið einn vinnudag án þess að stinga honum í samband við rafmagn og án þess að bensínrafstöðin færi nokkru sinni í gang. Þessvegna fengum við bílinn aftur lánaðan skömmu eftir áramótin í miðjum kuldakafla. Við tókum við honum með tæplega hálfhlöðnum rafgeymunum og ókum austur á Selfoss. Á Hellisheiðinni var þá 16 stiga frost og hvass mótvindur. Í slíkum kulda rýrna afköst rafgeymanna verulega og til að verða ekki krókloppinn inni í bílnum og til að ekki myndaðist héla á rúðum var miðstöðin látin ganga duglega. Allt þetta stuðlaði að því að hratt gekk á orkuforðann í geymunum. Þá gerðist það allt í einu í Ölfusinu skammt frá Kögunarhóli
Nóg er að hafa lykilinn í vasanum og ýta á Start á stóra stilknum á stýrisleggnum til hægri. Þá verður bíllinn akstursklár og orðið Ready eða tilbúinn birtist á skjánum fyrir framan ökumann. Þá er bara næst að stíga á bremsuna og setja gírveljarann úr P í D. Á skjánum sýnir stóra talan hraða bílsins. Einnig sést hvert áætlað drægi sé á rafmagni annarsvegar og bensíni hinsvegar. Tölva bílsins uppfærir síðan þær áætlanir jafnt og þétt eftir aksturslagi og aðstæðum. Hinn skjárinn sýnir flest annað viðkomandi akstrinum. Valhjól fyrir hann er milli framsætanna.
að bensínrafstöðin í bílnum datt í gang - loksins. Það var ekki meira en svo að maður yrði þess var, svo hljóðlát var hún. En um leið og hún var komin í gang, þá sýndi skjárinn í mælaborðinu að bíllinn væri kominn í sparakstursham sem m.a. þýðir það að öll 170 hestöflin eru ekki lengur tiltæk heldur aðeins um helmingur þeirra. Það skipti hins vegar engu máli þarna á jöfnum 90 km þjóðvegarhraða þar sem 85 hestöfl nægja fyllilega og gott betur. En á Olísstöðinni að Arnbergi við Selfoss er hraðhleðslustöð og þar stungum við bílnum í samband í um hálftíma. Eftir það sýndi skjárinn í mælaborðinu að geymarnir væru hlaðnir að tæplega ¾. Það dugði til heimferðarinnar upp Kamba og yfir Hellisheiði. Heimferðin var bæði undan vindi að mestu auk þess sem af hábungu Hellisheiðarinnar hallar undan langleiðina til Reykjavíkur. Í talsverðu snatti milli hverfa og húsa á höfuðborgarsvæðinu kláraðist svo straumurinn sem hlóðst inn á Selfossi og aftur fór rafstöðin í bílnum í gang. Sá meginlærdómur sem af þessum reynsluakstri má draga er, að á þessum bíl er hreinlega ekki nokkur ástæða til að láta drægisóttann ná tökum á sér. BMW i3 kemst með mann þangað sem för er heitið.
Í akstri BMW i3 reyndist sérlega notalegur í akstri og notkun. Rúmt er um ökumanninn og útsýni gott úr bílnum. Það er sérstaklega aðlaðandi hversu hljóðlátur hann er. Þá er hann sem fyrr segir mjög viðbragðssnöggur og það svo mjög að erfitt er að stilla sig um að sýna öðrum ökumönnum á aflmiklum bensín- og dísilbílum við hlið manns á rauðu ljósi hvers hann er megnugur þegar hið græna kviknar. BMW i3 stingur flestalla af þar. Hægt er að velja um þrenns konar akstursstillingar. Sú stilling þar sem öll 168 bremsuhestöflin eru til ráðstöfunar nefnist Comfort og er hún eðlilega sú orkufrekasta. Sú næsta nefnist Eco Pro. Í henni er bíllinn heldur seinni í hundraðið auk þess sem hann er sagður hægja meir á sér þegar slakað er á inngjöfinni þótt við fyndum ekki sérstaklega fyrir því. Afhröðunin virtist svipuð í öllum akstursstillingunum þremur og er það öflug að í þéttbýlisumferðinni þarf nánast aldrei að snerta hemlafetilinn til að hægja á bílnum eða stöðva. Hin öfluga afhröðun þegar létt er á ,,bensínfætinum” hefur auðvitað þann tilgang að endurvinna hreyfiorku bílsins og skila henni sem rafmagni inn á geymana.
Það er aðeins í Comfortstillingunni sem öll 170 hestöflin eru til ráðstöfunar og hægt er að ná hámarkshraða bílsins. Orkusparnaðarstillingarnar tvær; Eco Pro og Eco Pro+ takmarka hann við mest 110 km á klst. En ef ökumaður stígur inngjöfina snöggt í botn, þá hrekkur bíllinn sjálfvirkt í Comfort-stillinguna aftur. Þriðja akstursstillingin, Eco Pro+, er sú sem er mest orkusparandi og takmarkar hámarkshraðann mest og fækkar mest hestöflunum sem til ráðstöfunar eru. Þessi stilling hentar mjög vel í þéttbýlisakstri, sérstaklega í þéttri umferð. Enda þótt i3 sé rafbíll og fyrst og fremst hannaður til notkunar í þéttbýli leynir það sé ekkert að þetta er BMW sem líka hentar til vega- og hraðbrautaaksturs og ræður vel við það á allan hátt. Stýrið er nákvæmt og rásfast og svarar vel og bíllinn þótt hábyggður sé, er eins og hugur manns í flestum akstri. En þar sem bæði rafmótorinn og bensínrafstöðin eru hvortveggja staðsett yfir afturöxlinum og bíllinn afturhjóladrifinn, þá fannst það í rokinu á Hellisheiðinni að framendinn var óstöðugri en hjá venjulegum bíl með vélina fram í og framhjóladrif. Eiginlega var hann svolítið keimlíkur 41
BÍLAPRÓFUNFÍBFÍ B BÍLAPRÓFUN
gömlu VW bjöllunni þar. En það hefur þessi afturhjóladrifni bíll framyfir framhjóladrifnu bílana að hann leggur miklu betur á en þeir og hægt er að snúa við á götu án þess að snerta gangstéttarbrúnir og án þess að þurfa að bakka. Beygjuradíusinn er sérlega stuttur eða trúlega svipaður og á svörtu Lundúnaleigubílunum fornfrægu sem nánast ,,snúa á punktinum.” Stjórntæki BMW i3 eru öll rafræn og tölvutengd. Ekkert eiginlegt mælaborð er fyrir framan ökumann heldur tveir tölvuskjár, annar beint framanvið ökumann og hinn, sem er snertiskjár, á miðju mælaborðinu. Á þeim birtast allar upplýsingar sem ökumaður þarfnast í akstrinum um hraða, rafmagns- og bensínstöðu og ætlað drægi, um staðsetningu orkustöðva, hitastig úti og inni og margt margt fleira. Sérstakt leitar- og flettihjól er milli framsætanna og með því getur ökumaður kallað fram það sem hann þarfnast, t.d. leiðsögukort, útvarpsstöð til að hlusta á eða bara stillt miðstöðina. Á stýrishjólinu eru svo takkar, m.a. til að hækka og lækka í útvarpinu og margt fleira. Öryggi og ábyrgðir Hvað öryggi varðar þá er BMW i3 með fjórar Euro NCAP-stjörnur. Það sem hindraði að hann næði fimmtu stjörnunni er, að enginn lóðréttur stólpi (B-stólpi) er milli botns og 42
lofts milli hliðarhurðanna. Það er meginástæða þess mótstöðuafl bílsins gagnvart árekstrum frá hlið er minna en ella væri og það kostar þennan bíl fimmtu stjörnuna. Euro NCAP árekstrarprófaði bílinn árið 2013. Það leiddi í ljós mjög góða vernd fullorðinna (86%) og barna (81%) en vernd fólksins í bílnum reyndist heldur slakari í hliðarárekstrum eða 57%. Framleiðandi tekur ábyrgð á hugsanlegum göllum og bilunum í bílnum í þrjú ár óháð kílómetrastöðu. Auk þess er veitt sérstök átta ára og/eða 100 þúsund km ábyrgð á rafhlöðusamstæðunni að því segir á heimasíðu innflytjandans BL. (Í Bretlandi nær þessi ábyrgð til 100 þúsund mílna eða 160 þ. km).
BMW i3 með innbyggðri ljósavél Verð: Verð: 5,4 millj. kr. (Án ljósavélar 4,6 millj. kr) Viðbragð 0-100: 8 sek. (Án ljósavélar 7,3 sek) Lengd/breidd/hæð í sm:400/178/158 Losun CO2: 120 g/km Veghæð: 14 sm. Farangursskott: 260 lítrar. Orkurýmd rafgeyma: ??? kW. Rýmd bensíngeymis: 9 lítrar. Meðal CO2 útblástur: 12.g pr. km. (Án ljósavélar 0 g).
JACUAR Á HESTHÁLSINN
Sport- og lúxusbílategundin Jaguar kemur senn á íslenska markaðinn á vegum BL. Bygging og lóð Frumherja við Hestháls hefur verið keypt og verður nýtt hús byggt fyrir sýningarsali og skrifstofur og tengt við Frumherjahúsið, sem frá upphafi hefur hýst bifreiðaskoðunarstöð. Í því verður þjónustumiðstöð fyrir Jaguar bifreiðarnar. Þessar áætlanir allar voru kynntar nýlega og gafst bílablaðamönnum kostur á að kynnast í akstri nokkrum gerðum fólksbíla og jeppa sem allir teljast tilheyra þeim flokki bíla sem
kallast ,,Premium” og útleggja má sem gæðabílar. Ekið var til Grindavíkur, um Suðurstrandarveg, Ölfus og Hellisheiðina til baka til Reykjavíkur. Fólksbílarnir voru annarsvegar XEgerð sem að stærð svipar til 300 línu BMW og hinsvegar XF sem svipar til 500 línunnar og loks jeppinn F-Pace í þrennskonar útfærslu. En segja má almennt að helsta sérstaða Jaguar bílanna felist í því að þeir eru léttir, hraðskreiðir og öflugir og byggðir úr áli.
Jaguar er í margra huga, ekki síst Breta, eitt af því merkasta og besta sem breskur bílaiðnaður hefur alið af sér og nefna sportbílinn Jaguar E og fyrirrennara hans og lúxusbílinn XJ frá áttunda áratuginum og fyrirrennara hans því til staðfestingar. Enn er Jaguar framleiddur í Bretlandi en er engu að síður, ásamt Land Rover, alfarið í eigu indversku Tata-fjölskyldunnar sem varðveitir vel gott orðspor Jaguar sem gæðabíla með bestu aksturseiginleika.
31% fleiri nýir bílar seldust á Íslandi 2016 en árið áður
VW GOLF VAR MEST SELDI BÍLLINN Í EVRÓPU Í FYRRA
S
ala á nýjum bílum í Evrópu í fyrra um 6,5 prósent frá 2015. Alls keyptu íbúar Evrópska efnahagssvæðisins (ES og EFTA) 15 milljón 131 þús.719 bíla í fyrra og af þeim keyptu Íslendingar 18.448 bíla miðað við 14.004 árið 2015, sem er 31,7 prósenta aukning. Nýbílasalan í Evrópu í fyrra er sú mesta undanfarin níu ár. Þetta kemur fram í tölugögnum ACEA sem eru samtök evrópskra bílaframleiðenda. Aukningin milli áranna 2015 og 2016 á Íslandi (31,7%) er hlutfallslega sú mesta í Evrópu. Næst mest varð hún í Ungverjalandi, 25,1% og sú þriðja mesta varð í Króatíu, 23,5%. Samdráttur varð í tveimur ríkjanna milli áranna 2014 og 2016. Þau eru Holland -14,7% og Sviss -2%.
Af einstökum tegundum bíla reyndust flestar nýskráningar í ríkjum ES vera á Volkswagen. 1.720.829 Volkswagenbílar voru nýskráðir miðað við 1.728.388 bíla árið áður, sem er 0,4% samdráttur. Næst
flestar nýskráningar voru á Renault, 1.100.880 á móti 945.453 árið 2015. Það er 12,9% aukning. Í þriðja sæti kemur svo Peugeot með 865.374 nýskráningar móti 856.194 árið á undan sem er 1,1% aukning. 43
BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR
SÖLUHÆSTI BÍLL HEIMSINS 2016 TOYOTA COROLLA
T
oyota Corolla er lang vinsælasta bílategundin í heiminum þessi árin. Síðasta ár seldust rúmlega 1,3 milljón Corollur. Það þýðir að sérhvern dag ársins að frí- og helgidögum meðtöldum, tóku að meðaltali 3.597 kaupendur við nýjum Corolla bílum. Enginn annar bíll kemst með tærnar nálægt hælum Corollunnar í sölu, enda þótt 3,6 prósenta samdráttur hafi orðið í sölu hennar í heiminum milli áranna 2015 – 2016. Þetta og margt fleira má m.a. lesa í tölugögnum Focus2move um bílaframleiðslu og -sölu í heiminum öllum sem og í einstökum ríkjum. Ekki er það minna athyglisvert að
næst mest seldi bíll heimsins 2016 er eiginlega vörubíll með svipaða burðargetu og einn algengasti vörubíllinn á Íslandi fyrstu 10-20 eftirstríðsárin, Ford 1942-1948. Það er pallbíllinn Ford F. Ford F er ekki bara vinsælasti pallbíll Bandaríkjanna auðvitað og líka alls heimsins, heldur er hann einfaldlega sá næst vinsælasti, óháð tegund og gerð og hefur ýtt Volkswagen Golf úr öðru sætinu niður í það þriðja á heimslistanum. Að vísu er munurinn, F-Fordinum í hag, ekki mikill – einungis 2.365 bílar. Þetta skýrist af því að milli áranna 2015-2016 dróst heimssalan á VW Golf saman um 6,2 prósent en heimssalan á Ford F jókst um 7,6 prósent.
KÍNVERJAR EIGNAST 22% Í VALMET Í FINNLANDI
K
ínverski rafhlöðuframleiðandinn CATL (Contemporary Amperex Technology Limited) hefur keypt 22 prósent hlut í finnsku bila- og traktoraverksmiðjunni Valmet. Tilgangurinn með kaupunum er að ná traustri fótfestu og forystu á evrópskum rafbílamarkaði í framleiðslu og sölu bæði rafbíla, rafhlöðupakka og drifbúnaðar fyrir rafbíla. Markaðsspámenn hafa þóst geta greint að tilgangurinn með kaupunum sé ekki síst sá að láta ekki hið bandaríska Tesla vera eitt um hituna á þessum ört vaxandi markaði en Tesla hefur einmitt látið í ljós vilja til að reisa mjög stóra rafhlöðuverksmiðju í Finnlandi og herja þaðan inn á 44
evrópska markaðinn. Þegar kaup Kínverjanna voru kynnt nýlega í Finnlandi var þetta í raun staðfest af talsmanni CATL sem sagði: ,,Sameiginlegt markmið okkar (CATL og Valmet) er að ná traustri fótfestu á evrópskum rafbíla- og rafbílatæknimarkaði.“ Valmet er velþekkt bílaframleiðslufyrirtæki þótt aldrei hafi þar verið framleiddir bílar undir eigin nafni heldur einungis traktorar. Þeir bílar sem Valmet hefur framleitt um skemmri eða lengri tímabil eru nokkrir, m.a. Saab, Opel, Fisker og Porsche og Mercedes Benz - nú síðast GLC jeppinn frá
Mercedes Benz. Bílar sem framleiddir hafa verið hjá Valmet hafa þótt sérlega vandaðir og vel byggðir. CATL er mjög stór framleiðandi líþíumrafhlaða fyrir rafbíla og tvinnbíla. Framleiðsla fyrirtækisins á þeim þrefaldaðist á síðasta ári og eykst
DAB+ TEKUR VIÐ
N
orðmenn eru byrjaðir að slökkva endanlega á FM og AM (miðbylgju) útvarpssendum í landinu. Í stað FM útvarpsins kemur stafrænt útvarp (DAB/ DAB+). Net DAB-senda er þegar tilbúið að mestu til að leysa FMútvarpið af hólmi. Þann 11. janúar sl. var slökkt öllum FM sendum á Nordland svæðinu sem er syðst í Noregi og 8. febrúar nk. verður slökkt á gömlu útvarpsog sjónvarpssendunum (hliðrænu sendunum) þar fyrir norðan, eða í Þrændalögum og Mæri. Þar á eftir verður slökkt sífellt norðar og norðar og að síðustu nyrst í landinu á Troms- og Finnmerkursvæðinu. Það verður gert undir lok ársins. Þar með er hliðrænt útvarp úr sögunni í Noregi. DAB kerfið er þegar orðið nokkurnveginn fullvirkt enda þarf almenningur að hafa svigrúm til aðlögunar að nýja kerfinu vegna þess að gömli venjulegu FM viðtækin bæði heima og í bílunum verða ónothæf eftir næstu áramót víðast hvar. Það
enn hröðum skrefum. Áætlað er að árið 2020 verði ársframleiðslan komin upp í 50 gígaWatttíma sem er sexföld afköst frá því sem nú er og er verulega meira en afkastageta Tesla-rafhlöðuverksmiðjunnar Gigafactory í Nevadaríki verður þegar hún kemst í gagnið.
þýðir að til að geta heyrt útvarp þarf að endurnýja útvarpið í bílnum, fjarlægja FM tækið úr bílnum og kaupa DAB útvarp í staðinn. Sama þarf þá að gera við ferðaútvarpstækin og jafnvel hljómtækin í stofunni. En auðvitað má í millitíðinni heyra útvarp
í gegn um nettengda tölvu. Þegar í dag eru 762 DABsendar orðnir virkir í Noregi. Flestir eru á vegum ríkisins og miðla útvarpssendingum norska ríkisútvarpsins, bæði hinum almennu rásum og svæðisútvarpsrásum. En 188 sendar eru í einkaeigu og miðla bæði opinberu útvarpsrásunum
og einkareknum auglýsingarásum. Útsendingar DAB útvarps eiga að nást nánast allsstaðar í Noregi, þar á meðal inni í a.m.k. 260 veggöngum um allt landið og til skipa, olíuborpalla og eyja í rúmlega 50 km fjarlægt frá Noregsströndum. Noregur er fyrsta ríkið í heiminum til að hætta alfarið rekstri hliðræns útvarps (FM/AM). 20 ár eru síðan ákvörðunin var tekin um það og þá hófust stafrænar útsendingar (DAB) útvarps í landinu. FÍB blaðið spurðist fyrir um það hjá Póst og fjarskiptastofnun hvar DAB útvarp á Íslandi væri á vegi statt. Bjarni Sigurðsson hjá stofnuninni sagði að það væri í raun í biðstöðu. Ríkisútvarpið hefði verið með DAB tilraunaútsendingar fyrir nokkru en þeim hefði verið hætt. Það væri alfarið undir hverjum og einum útvarpsrekanda komið hvort eða í hve miklum mæli hann vildi byggja upp dreifikerfi fyrir DAB útsendingar og áhugi þeirra íslenskra útvarpsfélaga sem hér eru fyrir því, virtist ekki mikill, enda þótt tæknilegt og lagalegt umhverfi DAB eða stafræns útvarps væri til staðar.
Örnólfur Thorlacius Örnólfur Thorlacius, fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og öflugur liðsmaður og velunnari FÍB og höfundur margra áhugaverðra greina í FÍB blaðinu, lést 5. febrúar sl. 85 ára að aldri. Örnólfur var alla ævi sína góður og farsæll kennari og í þeim anda var allt hans starf, ekki síst sem mikilvirks rithöfundar fjölda fræði- og kennslubóka og greina í blöð, tímarit og vísindarit. Hann gerði sér mjög far um að fræða nemendur sína og almenning allan og fjölmargir minnast frábærra sjónvarpsþátta hans um nýjustu tækni og vísind o.m.fl. sem voru á dagskrá Sjónvarpsins um árabil. Ritstjórn FÍB blaðsins vill að leiðarlokum votta afkomendum og ástvinum Örnólfs samúð. 45
BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR NEYTENDAMÁL
NÝR
BRONCO KEMUR Á MARKAÐ 2020
N
ýr Ford Bronco jeppi kemur á markað 2020 en tilkynnning þess efnis var gefin út á bílasýningunni í Detroit. Lítið sem ekkert gáfu talsmenn Ford þó upp þar um hverskonar jeppi þetta yrði í tæknilegu tilliti eða hve stór. Fyrsta kynslóð Bronco jeppanna kom fram árið 1966 og sló strax í gegn á Íslandi. Frá hendi Fords var bíllinn þó ansi hrár og eiginlega bara fjögurra sæta og að öðru leyti að mestu óinnréttaður. En margir sem eignuðust Bronco breyttu þeim snarlega í lúxusjeppa þess tíma með því að innrétta þá smekklega, hita- og hljóðeinangra og setja rúmgott aftursæti í þá fyrir þrjá. Einnig bættu margir aksturseiginleika bílanna með því einu að taka fáein blöð úr afturfjöðrunum og setja öflugri
tvívirka dempara við öll hjól. Það breytti miklu. Bílarnir urðu þýðari og stöðugri í akstri. Fyrsta kynslóð Ford Bronco kom sem fyrr segir fram árið 1966 og lifði til 1977 en þá tók nýr og mun stærri Bronkó við. Árið 1966 var hinn hugmyndaríki Lee Iaccoca forstjóri Fords. Hann og hægri hönd hans; Donald Frey, vildu endurnýja staðnaða bílaframleiðsluna í Detroit og koma fram með eitthvað nýtt sem betur höfðaði til eftirstríðskynslóðanna og fyrstu nýjungarnar voru einmitt hinn nú klassíski sportlegi Ford Mustang og svo jeppinn Ford Bronco sem skyldi vera jafnvígur til notkunar í torfærum sem á hraðbrautum.
PEUGEOT 3008 BÍLL ÁRSINS Í EVRÓPU
P
Fyrsta kynslóð beggja þessara bíla telja flestir nú hafa verið þær merkustu. Því er talið nokkuð víst að nýi Bronkóinn sem kemur 2020 muni bera sterkan svip af fyrstu kynslóðinni sem nú er orðinn safngripur víða og góð eintök seljast gegn háu verði. Bæði Mustanginn og fyrsti Bronkóinn voru tímamótabílar á sinn hátt. Báðir voru hannaðir frá grunni og yfirbygging og burðarvirki beggja var hvorttveggja nýtt og átti fátt sameiginlegt með öðrum bílum Fords á þessum tíma. Sérstaklega átti þetta við Bronkóinn. Yfirbyggingin og grindin átti nánast ekkert sameiginlegt með öðrum Ford bílum. Aðeins vélar, gírkassar og drif áttu sér samsvaranir í öðrum Fordum þessa tíma.
eugeot 3008 er bíll ársins í Evrópu 2017 en þetta var tilkynnt við bílasýningunni í Genf. Þessi útnefning þykir ein sú virtasta í bílaheiminum en bíllinn hefur vakið verðskulduga athygli. Í öðru sæti var Alfa Romeo Giulia og í þriðja sæti hafnaði Mercedes E-class. Peugeot 3008 þykir framúrskarandi vel hannaður bíll og stílhreinn í hvívetna. Innrarými bílsins er einstaklega vel hannað og bíllinn þykir hafa frábæra aksturseiginleika. Bíllinn fær hvarvetna mjög góða dóma og var t.d. kjörinn bíll ársins í Danmörku fyrir skemmstu. Fimm aðrar bílategundir komust í lokaumferðina en það voru Citroen C3, Nissan Micra, Toyota C-HR, Volvo S90 og V90.
46
BÍLL KNÚINN ÁFRAM AF SALTUPPLAUSN
B
ílafyrirtæki í Lichtenstein sem heitir NanoFlowcell viðraði framtíðarhugmynd sína um saltknúinn bíl á bílasýningunni í Genf í fyrra. Á sýningunni í ár sýndi fyrirtækið birtingarmynd ,,saltbílsins,“ sportbílinn Quant 48Volt. Quant 48Volt er rafknúinn. Rafmótorar eru við hvert hjól, sem fá orkuna úr tveimur vökvageymum. Í öðrum geyminum er sterk saltupplausn mettuð pósitívt hlöðnum jónum en í hinum eru jónirnar negatívt hlaðnar. Þegar þessir vökvar svo blandast leysist út 48 Volta raforka sem knýr rafmótorana fjóra.
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu NanoFlowcell er þessi samruni algerlega hættulaus, engin mengun verður né heldur skapast brunahætta.
Þá þarfnist þessi tækni ekki þess að þurfa að reiða sig á rafhleðslustöðvar hér og þar, heldur einungis áfyllingarstöðva þar sem hægt er að nálgast vatn og salt. Bíllinn með samanlagt 760 hestafla vélarafl Bíllinn sjálfur er með samanlagt 760 hestafla
vélarafl og er sagður komast á 300 km hraða og á fullum saltvatnstönkum er hann sagður komast þúsund kílómetra vegalengd. Enn sem komið er liggja engar fræðilegar skýringar frammi, né heldur upplýsingar um hvernig þetta allt gerist né hvort þetta sé eins vænlegt og hermt er. Tæknitímarit sem greint hefur frá bílnum hefur þó bent á að sé rafspennan í bílnum einungis 58 volt þá þurfi mjög svera kapla til að flytja nægan straum með svo lágri spennu til mótoranna og kallar eftir frekari skýringum á hvernig það sé leyst
GESTIR FRÁ NORÐUR AMERÍKU ÓKU MEST UM VEGI LANDSINS
G
estir frá Norður-Ameríku óku mest eða um 128 milljónir km, 24% af heildinni. Síðan komu ferðamenn frá Suður-Evrópu, utan helstu markaðssvæða og MiðEvrópubúar með 79-87 milljónir km eða 15-16% hlutfall hver hópur. Þetta er m.a. sem kemur fram Í skýrslu um Akstur og öryggi erlendra ferðamanna 2016. Þá komu ferðamenn frá Asíu og Bretlandi með 45-49 milljónir km og 8-9% hlutfall hvor hópur en ferðamenn frá Norðurlöndunum og BeNeLux löndunum óku styst eða um 33 miljónir km alls og um 2% hvor hópur. Áætlað er að erlendir ferðamenn hafi ekið bíleigubílum alls um 540 milljónir km á Íslandi árið 2016 (miðað við þrjá í bíl að jafnaði). Það samsvarar meðalakstri um 45 þúsund heimilisbíla á Íslandi miðað við 12 þúsund km akstur á ári.Um 80% þeirra sem leigðu sér bílaleigubíl
á Íslandi árið 2016 lögðu leið sína að Geysi og Gullfossi (alls um 245 þúsund bílaleigubílar) og um 70% að Þingvöllum. Gullni hringurinn er nálægt því að vera um 250 km en oft fara ferðamenn nokkru lengri hring, s.s. að Flúðum (Gamla Laugin) eða annað. Ef gert er ráð fyrir því að þeir sem fóru Gullna hringinn eða stærstan hluta hans hafi að jafnaði ekið um 300 km í tengslum við það má lauslega áætla heildarakstur á bilinu 70-80 milljónir km árið 2016. Það gera 13-15% af heildarakstri erlendra ferðamanna á bílaleigubílum ári 2016. Ef miðað er við 8 lítra meðaleyðslu bílanna á hverja 100 km og eldsneytisverð að jafnaði 200 kr á lítra má lauslega slá á að eldsneytisútgjöld erlendra ferðamana vegna aksturs á bílaleigubílum um Gullna hringinn og nágrenni árið 2016 hafi numið 1,1-1,3 milljörðum króna. 47
BÍLAPRÓFUN FÍB ÖRYGGISMÁL
EURO NCAP HEFUR BJARGAÐ 78.000 MANNSLÍFUM
N
ú í febrúar voru 20 ár frá því að hin óháða prófunarstofnun Euro NCAP hóf að árekstrarprófa nýja bíla. Í fyrstunni vildu bílaframleiðendur sem minnst af Euro NCAP vita en sérstaklega eftir að Volvo tók að vitna til niðurstaðna Euro NCAP var ísinn brotinn. Á þessum 20 árum hefur öryggi og árekstrarþol nýrra bíla batnað gríðarlega og rannsóknir sýna að tilkoma Euro NCAP hafi bjargað minnst 78 þúsund mannslífum í Evrópu. Euro NCAP er í sameiginlegri eigu bifreiðaeigendafélaganna í Evrópu og er upphaflega sprottið upp úr öryggisog slysavarnaátaki innan FIA í kjölfar mikillar slysahrinu í bílasportinu, ekki síst í Formúlunni, á níunda og tíunda áratuginum. Fyrstu árekstrararprófin voru gerð í febrúar 1997 á sjö vinsælum bifreiðategundum. Þau leidddu í ljós að árekstrarþol bílanna var lítið sem ekkert. Framleiðendur bílanna brugðust flestir ókvæða við og sögðu að kröfur Euro NCAP til styrkleika bíla væru alltof strangar og útilokað væri að uppfylla þær. Enginn bíll gæti nokkru sinni fengið fjórar stjörnur í árekstrarprófum Euro NCAP, sem þá táknaði hæstu öryggiseinkunn. En aðeins fáum vikum síðar hlaut bíll allar fjórar stjörnurnar í árekstrarprófun Euro NCAP nokkrum 48
vikum síðar og þar með var ísinn brotinn og bílaframleiðendur hver af öðrum hófu að huga að öryggi fólksins í bílunum og byggja sterkari og árekstrarþolnari bíla. Síðan þá hefur Euro NCAP árekstrarprófað rúmlega 630 mismunandi bíla og bílarnir hafa stöðugt batnað að þessu leyti og kröfur og viðmið Euro NCAP orðið stöðugt strangari og nákvæmari. Það er því enginn vafi á því að Euro NCAP hefur skilað almenningu miklu sterkari og öruggari bílum en annars hefði orðið og jafnframt stuðlað að miklu hraðari þróun hverskonar virks öryggisbúnaðar eins og loftpúða, læsivarðra hemla, skrikvarnarbúnaðar, sjálfvirkrar neyðarhemlunar o.fl og að slíkur búnaður einskorðist ekki við dýrustu lúxusbílana heldur sé staðalbúnaður í öllum bílum hins venjulega fólks.
Öll starfsemi og allar niðurstöður Euro NCAP hafa alltaf verið fyrir opnum tjöldum og öllum aðgengilegar og upplýsingarnar skýrar og auðskiljanlegar. Það hefur gert bílakaupendur sem neytendur miklu meðvitaðri um öryggi sitt og annarra en áður hefur þekkst. Hin opna starfsemi Euro NCAP hefur þannig eflt mjög vitund neytenda og gert þeim það mögulegt að bera saman öryggisþætti bíla áður en kaup eru ákveðin.
Í dag er svo komið að níu af hverjum tíu bílum sem neytendum standa til boða í Evrópu hafa verið árekstrarprófaðir af Euro NCAP, sem bæði almenningur og stjórnvöld hafa fyrir löngu tekið í sátt og treysta sem óháðum ábyrgum aðila. Eitt Evrópuríki – Danmörk – hefur meira að segja lögfest sérstakan afslátt af innflutnings- og skráningargjöldum við kaup á bílum sem náð hafa fimm stjörnum hjá Euro NCAP.
EURO NCAP Í ÁRANNA RÁS 1996 – Euro NCAP (New Car Assessment Programme) stofnað sem óháð öryggisprófunarstofnun af samtökum bíleigenda- og neytendafélaga í Svíþjóð, Bretlandi og Hollandi með stuðningi samtaka bifreiðaeigendafélaga, FIA.
1997 – Fyrsta árekstrarprófunin. Prófaðir voru sjö vinsælir smáog millistærðarbílar. Verulegir öryggisbrestir komu í ljós í þeim öllum.
2001 – Euro NCAP breytir öryggismatinu. Hæsta öryggiseinkunnin verður fimm stjörnur í stað fjögurra áður. Bifreiðaframleiðendur lýsa yfir hver af öðrum að þeir ætli framvegis að framleiða öruggari bíla. Byrjað að meta styrk bíla gagnvart árekstri frá hlið.Renault Laguna er fyrsti bíllinn sem hlýtur fimm stjörnur eða fullt hús.
2014 – Einkunnagjöf fyrir sjálfvirka neyðarhemlun (AEB) og akreinalínulesara verður beinn hluti af aðal-öryggiseinkunn (stjörnugjöf) bíla. Byrjað að meta nýjan öryggisbúnað eins og hraðatakmarkara og skiltalesara. 2015 – Árekstrarprófið sjálft útvíkkað þannig að ekki er lengur eingöngu líkt eftir árekstri tveggja bíla þar sem 40% af framendua bílsins rekst á hindrun, heldur er þol bílanna líka prófað í árekstri á steinvegg.
2003 – Öryggi barna í barnabílstólum verður þáttur í árekstrarprófunum. 2008 – Euro NCAP byrjar að meta hæfi ökumannssætanna til að verja -ökumann gagnvart hálshnykk.
2016 – Prófun á sjálfvirkri hemlun (AEB) er hert þannig að nú verður kerfið að geta ,,séð“ fótgangandi. Jafnframt eru kröfur til annarra öryggiskerfia bílanna hertar.
2009 – Euro NCAP innleiðir nýtt heildarmat. Bílar eru ekki lengur eingöngu öryggismetnir út frá árekstrarþoli þeirra heldur líka eftir virkum öryggisbúnaði í þeim, eins og ESC skrikvörn, sjálfvirkri neyðarhemlun og búnaði sem minnir fólkið í bílnum á að spenna beltin.
2010 – Euro NCAP Advanced er sérstök viðbótar stigagjöf sem innleidd var fyrir ýmsan viðbótarnýtæknibúnað, sem stuðlað getur að færri slysum eða dregið úr afleiðingum slysa. 2011 – Euro NCAP árekstrarprófar fyrsta rafmagnsbílinn. 2012 – Árekstrarprófanir á sendibílum og smárútum hefst.
2018 – Prófun á árekstursþoli bíla frá hlið víkkað út þannig að þolið er prófað frá báðum hliðum bíla. Radarsjón AEB kerfis bíla verður einnig að sjá reiðhjólafólk og geta brugðist við og hemlað bílnum.
49
HJÓLBARÐAR AFSLÆTTIR TIL FÉLAGSMANNA
Félagmenn! Mikið úrval ferðabóka Skúlagata 19, Reykjavík og netverslun á fib.is
FÍB AFSLÆTTIR AF HJÓLBÖRÐUM
HÆGT ER AÐ SKOÐA ALLA AFSLÆTTI TIL FÉLAGSMANNA INNÁ FIB.IS
50
BARITO AKSTURSSÓLGLERAUGU Fullkomin polaroide sólgleraugu með UV-400 gleri, sem gefur betri sýn í bæði sterku sólarljósi og skýjuðu veðri. Glerið fangar útfjólubláu geislana og tekur skyggingar í burtu.Frábær gleraugu á frábæru verði. Hulstur og klútur fylgir með. Verð til félagsmanna
Varan fæst hjá FÍB að Skúlagötu 19 Opið frá kl. 8.15 - 16.30 virka daga. Póstsendum um land allt samdægurs.
kr. 5.748.-
Almennt verð kr. 7.185.-
VIÐVÖRUNARÞRÍHYRNINGUR VIÐVÖRUNARÞRÍHYRNINGUR
SNJALLSÍMASTANDUR SNJALLSÍMASTANDUR
Viðvörunarþríhyrningur Viðvörunarþríhyrningur ECE R27 vottaður ECE R27 vottaður Hentugt geymslubox. Hentugt geymslubox.
Stillanlegurfyrir fyrirhinar hinarýmsu ýmsustærðir stærðir Stillanlegur snjallsíma.Með sniðmót fyrir snjallsíma.Með sniðmót fyrir mismunandimismunandi hleðslutæki.hleðslutæki.Örugg sogskál. 360 snúningur. Létt að setja upp. Örugggráðu sogskál. Verð til félagsmanna 360 gráðu snúningur. kr. 4.448.Létt að setja upp.
Verð til félagsmanna
kr. 1.600.Verð til félagsmanna
Almennt verð kr. 2.000.-
kr. 2.256.-
Almennt verð kr. 5.560.-
Almennt verð kr. 2.820.-
Verð til félagsmanna
kr. 4.448.-
Almennt verð kr. 5.560.-
Hleðslutengi Kr. 2.608 Íslensar leiðbeiningar Landsbjörg frá & gúmmígel Vegahandbókin PlastEvrópu Bón Hard Wax 250ml Bónklútar rauðir VaskaskinnslíkiLoftdælaFelguhreinsir Atlas Kr.1.112
Kr. 672
Kr. 787
Kr. 5.360 Kr.1.557 Kr. 5.126
Kr. 1875 Kr.1.624
FÍB sjúkrataska í bílinn Kr.2.100
Yfir 120 titlar
Felguhreinsir Kr. 1.557
Hard wax 500ml Kr. 1.492
Vaskaskinn Kr. 787
Tjaldbúðaskírteini Kr. 1.500
FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS FÍB VERSLUN SKÚLAGÖTU 19, SÍMI 414-9999, OPIÐ VIRKA FRÁ KL. 8.30 - 16.30 VIRKA DAGA. VEFVERSLUN Á FIB.IS
51 49
SHOW YOUR CARD SYC afsláttarklúbbur bílaklúbba!
Innanlands
Jóhannes Karlsson 250467-4999 018887
Snjallforrit fyrir bæði Apple og Android
Félagsmenn FÍB hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbi í heimi. Show your Card! er landamæralaus afsláttarklúbbur bílaklúbba. Tugþúsundir staða út um allan heim sem gefa afslátt. Ef þú ætlar að leigja bíl í fríinu, kaupa hótelgistingu, fara í dýragarðinn, vatnagarðinn eða á söfn, kannaðu Show your Card! afsláttinn inni á fib.is áður en þú ferð og ferðakostnaðurinn minnkar. Mundu eftir FÍB félagsskírteininu það opnar þér aðgang.
10% 15%
Jarðböðin við Mývatn 20%
15%
20% FÍB - Show your Card afsláttur af aðgangi . Tveggja manna herbergi með
handlaugheimasíða kr. 9.900.Ný og aðgengilegri
Show Your Card Kannaðu málið inná fib.is
www.hertz.is/fib
10-15%
Hvalfjarðargöng kr. 700 20% Miðarnir fást einungis á skrifstofu FÍB, Skúlagötu 19 Sendum um land allt - s. 414-9999
15%
15%
52 52
NÝJIR FÍB AFSLÁTTARAÐILAR
20% af matseðli alla daga. Gildir ekki af drykkjum. Vestmannabraut 23, 900 Vestmannaeyjum http://www.900grillhus.is
Skeifan 5c, Reykjavík Sími: 5681411 10% afslátt af bæði vinnu og efni. Betri bílar sérhæfa sig í öllum almennum viðgerðum á Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Audi.
Hrísmýri 3, 482-4012 Afsláttur 10% af vinnu Afsláttur 10% af smur og 10% af dekkjum
Heimilsfang. Lágmúli 9, Sími: 5814200 Vefslóð: www.malningarvorur.is Afsláttur: 15% FÍB afsláttur
Bílastjarnan Bæjarflöt 12 Sími: 567 8686 www.bilastjarnan.is Afsláttur: 20% FÍB afsláttur af vinnu og varahlutum.
Víkurvagnar ehf Hyrjarhöfði 8, Sími: 577 1090 www.vikurvagnar.is Afsláttur: 10% FÍB afsláttur
Gallerí Fold Rauðarárstíg 14-16, Reykjavík http://www.myndlist.is 20% FÍB afsláttur af innrömmun.
Hókus pókus Laugavegi 69, Reykjavík http://www.hokuspokus.is 10% FÍB afsláttur af öllum vörum.
VIP Dekk ehf Eldshöfða 16 Sími: 690-9111 / 571-9111, vipdekk.is Afsláttur: 10-15% FÍB afsláttur
Guðmundur Arason ehf Skútuvogi 4 Rvk og Rauðhellu 2 Hf. Sími 568 6844 ga@ga.is afsláttur 10% FÍB afsláttur
53
54
Aðalskoðun hf. Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði Sími 590 6900 www.adalskodun.is Skeifan 5 (hjá vínbúðinni) sími 590 6930 Grjóthálsi 10 (við vesturlandsveg) sími 590 6940 Skemmuvegur 6, Kópavogi sími 590 6935 www.adalskodun.is Frumherji hf. Hestshálsi 6-8, Reykjavík Skeifunni (Grensásvegi 7) Reykjavík Gylfaflöt 19, Grafarvogi, Dalvegi 22, Kópavogi Garðatorgi, Garðabæ, Sími 570 9090 frumherji.is Dalshraun, Hafnarfjörður, Sími 570 9217 Tékkland Borgartún 24, 105 Reykjavík Holtagarðar, Reykjavík s. 414-9914 Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður s. 414-9912 Dalsbaut 1, Akureyri sími. 414-9916
BÍLAHÚS
Bergstaðir - Bergstaðastræti 6, 101 Rvk. Kolaport - við Seðlabanka Íslands, 101 Rvk. Ráðhúskjallari - við Ráðhús Reykjav. 101 Rvk. Stjörnuport - Laugavegi 94, 101 Rvk. Traðarkot - Hverfisgötu 20, 101 Rvk. Vesturgata - Vesturgötu 7, 101 Rvk. Vitatorg - Skúlagötu/Vitastíg, 101 Rvk. Nánari upplýsingar www.bilastaedasjodur.is
BÍLARÉTTING, SPRAUTUN,TJÓNAMAT
Arctic trucks ehf. Klettshálsi 3, 110 Reykjavík Sími 540 4900, www.arctictrucks.is A.B. skálinn, Gagnheiði 11, Selfossi s. 482 2200 Bifreiðaverkst.Kaupf. Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími. 455 4570 fax.455 4571 Bílamálun Egilsstöðum ehf. Fagradalsbraut 21 Sími 471 2005, 700 Egilsstöðum, Bílamálunin Lakkhúsið, Smiðjuvegi 48 200 Kópavogi, Sími 567-0790, www.lakkhusid.is Bílar og tjón ehf.Skemmuvegi 44m Bleik gata 200 Kópavogi, Sími 578 5070, www.bilarogtjon.is Bílasprautun og réttingar Hjartar Smiðjuvegi 56 rauð gata, Kópavogi, S.587 9020, rettingar.is Bliki- Bílamálun og réttingar ehf, Smiðjuvegi 38 gul gata, 200 Kópavogi,S.567 4477 Bílverk BÁ ehf, Gagnheiði 3, 800 Selfossi Sími 482 2224, Fax 482 2354 www.bilverkba.is 5 stjörnu vottað, bilverkba@simnet.is Kar ehf, Bæjarflöt 10, 112 Reykjavík S. 567 8686 Lakkskemman ehf.Skemmuvegi 30, blá gata 200 Kópavogi, Sími 557 4540 Réttingaverk ehf,Hamarshöfða10,RvkS.5674343 Réttingaþjónustan ehf, Smiðjuvegi 40, gull gata Kópavogi, s. 557 6333, rettingathjounstan@itn.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Réttur – bílaréttingar, Funahöfða 17, 108 Reykjavík s. 587 6350, F 587 6351, rettur.net Smáréttingar ehf. – Réttingaþjónusta Smiðjuvegi 36 gul gata, 200 Kópavogi S.588 4644 Víkur-ós ehf, Bæjarflöt 6, 112 Reykjavík Sími 587 7760, Fax 587 7761, www.vikuros.is
BÍLASÖLUR
Bílver ehf. Innnesvegi 1, Akranesi s.431 1985, Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 471 1436, Nýir og notaðir
BÍLAVARAHLUTIR
AB Varahlutir, Bíldshöfða 18, Rvk, s.567 6020 E.T. Einar og Tryggvi, Klettagarðar 11 Rvk, S. 568 1580, F. 568 0844 www.et.is Stilling hf, Kletthálsi 5, 110 Reykjavík Sími 520 8000, www.stilling.is Volvovarahlutir.is Parts4u.is, Febest.is Varahlutaverslunin Kistufell ehf, Brautarholti
105 Reykjavík, Sími 562 2104, www.kistufell.is Mekonomen, Smiðsbúð 2, 210 Garðabær, Símli 527 2300, www.mekonomen.is Ljósboginn ehf, Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík Sími 553 1244, ljosboginn@simnet.is
BÍLAUMBOÐ
Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík Sími: 590 2100, www.askja.is Bernhard, Vatnagörðum 24-26, 104 Reykjavík Sími: 520 1100, www.bernhard.is Brimborg, Bíldshöfða 6 og 8, 110 Reykjavík Sími: 5157000 www.brimborg.is BL, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík Sími: 525 8000 www.bl.is Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8, 110 Reykjavík Sími: 590 2000, www.benni.is Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Toyota, Kauptún, Garðabær Sími: 570 5070, www.toyotakauptuni.is Suzuki, Skeifunni 17, 108 Reykjavík Sími: 568-5100, www.suzuki.is
ALMENN BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Bílhúsið ehf, Smiðjuvegi 60, rauð gata, Kópavogi Sími 557 2540, Verkstæði/smurþjónusta, bilhusid.is Bifreiðastillingin ehf, Smiðjuvegi 40d, rauð gata 200 Kópavogi, Sími 557 6400, Fax 557 7258 Bifreiðaverkstæðið Baugsbót, Frostagötu 1b, 603 Akureyri S.462 7033, Metanísetningar Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar Smiðjuvegi 22, græn gata, 200 Kópavogi Sími 567 7360, Fax 557 7374, www.bfo.is Bifreiðaverkstæði Grafarvogs ehf, Gylfaflöt 24-30 112 Reykjavík, Sími 577 4477, Þjón. Bílabúð Benna Bifreiðaverkstæði Jónasar, Skemmuvegi 46, 200 Kópavogur, sími 557 1430. www.jonasar.is Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri Iðjuvöllum 5, 880 Kirkjubæjarklaustri S.487 4630, Gsm 820 4515, Verkstæði, hjólbarðaverkstæði, Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, S.455 4570 F.455 4571 Bifreiðaverkstæðið Pardus. Suðurbraut 565 Hofsósi, S.453 7380 pardus@pardusehf.is, Bílanes – Grandanes ehf. Bygggörðum 8, 170 Seltjarnarnesi S.561 1190, GSM 698 2212. Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, Almennar viðgerðir. Bílaverkstæði Austurlands, Miðási 2 700 Egilsstöðum, Sími 4705070, www.bva.is Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílaþjónusta Péturs ehf, Vallholti 17, 800 Selfossi Sími 482 2050, Alhliða viðgerðaverkstæði, smurstöð Bíljöfur bifreiðaverkstæði ehf. - biljofur.is Smiðjuvegi 34, 200 Kópavogi, Sími 544 5151 Bílstál ehf, Askalind 3, Kópavogi Sími 564 4632 Bílver ehf, Innnesvegi 1,300 Akranesi S. 431 1985 Hekla hf, Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík Sími: 590 5000, www.hekla.is Jeppasmiðjan ehf,Ljónsstöðum Árborg 801 Selfossi Sími 482 2858, Fax 482 1004, Varahlutir/breytingar Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi S. 564 1268, Þjónusta fyrir Renault, Hyundai, Land Rover, BMW Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Vélastilling sf, Auðbrekku 16, 200 Kópavogur
Sími 554 3140, Fax 564 4460, velastilling@simnet.is Vélrás Bifreiða- og vélaverkstæði velras@velras.is Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Sími 577 6670
BÍLSKÚRSHURÐIR OG OPNARAR
BIFREIÐAÞJÓNUSTA
BIFREIÐASKOÐUN
Glófaxi ehf. blikksmiðja, Ármúla 42, 108 Reykjavík Sími 581 2900, Fax 588 8336, www.glofaxi.is Héðinn, Gjáhellu 4, Hafnarfjörður, Sími 5692100 Bílskúrshurðaþjónustan, sími 892 7285
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐVAR Bílaþvottastöðin Löður ehf, Sími 544 4540, www.lodur.is
HJÓLBARÐAR OG ÞJÓNUSTA
Barðinn Skútuvogi 2, Reykjavík, s. 568-3080. Bifreiðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga Hesteyri 2, 550 Sauðarkróki, Sími 455 4570 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 1400, bilaattan@bilaattan.is Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153, bilvogur@simnet.is Dekkjahöllin, Skeifan 5, 108 Reykjavík, S.581 3002 Draupnisgata 5, 600 Akureyri S. 462 3002 Þverklettar 1, sími 471 2002, www.dekkjahollin.is Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, Hátúni 2a 105 Reykjavík, Sími 551 5508 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Gylfaflöt 3 112 Reykjavík , Sími 567 4468 Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Sólning hf, Smiðjuvegi 68-70, 200 Kópavogi Sími 544-5000, www.solning.is Njarðvík, Fitjabraut 12, s.421-1399 Selfossi, Austurvegi 52, s,482-2722 Hafnarfjörður, Rauðhellu 11, s. 568-2035 Hafnarfjörður, Hjallahraun 4, s. 565-2121 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is
PÚSTÞJÓNUSTA
Kvikk Þjónustan, Vagnhöfða 5, 110 Reykjavík, Drangahrauni 1, Hafnarfirði, s. 520 0600 kvikk.is
KERRUR OG DRÁTTARBEISLI
Vagnar og þjónusta,Tunguhálsi 10, Rvk s.567 3440
VERSLUN, LÁSASMIÐIR OG ÞJÓNUSTA
Bílasmiðurinn hf, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík Sími 567 2330, Fax 567 3844, bilasmidurinn.is Neyðarþjónustan lykla- og lásasmiður Skútuvogur 11, Reykjavík, s.5108888 Neyð.8006000
RAFGEYMAR OG ÞJÓNUSTA
Rafgeymasalan ehf, Dalshrauni 17, 220 Hafnarfirði Sími 565 4060, www.rafgeymar.is Rafstilling ehf, Dugguvogi 23, 104 Reykjavík S. 581 4991, Fax 581 4981, www.rafstilling.is Skorri ehf, Bíldshöfða 12, 110 Reykjavík Sími 577 1515, Fax 577 1517, www.skorri.is
SJÁLFSKIPTIVIÐGERÐIR
Stimpill ehf, Akralind 9, 201 Kópavogi,S. 564 1268
SMURSTÖÐVAR
Bílvogur ehf, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi Sími 564 1180, Fax 564 1153 Bíla áttan, Smiðjuvegi 30, 200 Kópavogi Sími 587 14 00, bilaattan@bilaattan.is Smur og dekkjaþjónusta, Aðalstræti 3 450 Patreksfirði, Sími 456 1144 Smurstöðin Fosshálsi, Fosshálsi 1, Rvk s.567 3545 Smurstöðin Akranesi, Smiðjuvöllum 2, S.431 2445 Stimpill ehf, Akralind 9, Kópavogi, Sími 564 1268 Réttir bílar , Dugguvogi 10, 104 Reykjavík s. 554 3044 , www.rettirbilar.is
VINNUVÉLAR
Vélfang ehf, Gylfaflöt 32, 112 Reykjavík Sími 580-8200, velfang@velfang.is www.velfang.is
55
Varahlutir í bílinn Ve r ksmiðju á byrgð á þ í n u m b í l er tr y g g ð með vot t u ðu m va rah l u tu m f rá Sti l l i n g u
Smursíur
Rafgeymar
Kerti, háspennukefli, kveikjuþráðasett, súrefnisskynjarar og loftflæðiskynjarar
Tímareimar og vatnsdælur
Kúplingar
Demparar, gormar og stýrisendar Hemlahlutir
56
Allt fyrir bílinn St il l in g hf. | Sí mi 5 2 0 8 0 0 0 | w w w. s t i l l i n g . i s | s t i l l i n g @ s t i l l i n g . i s