Skrápur SecondSkin Ráðhildur Ingadóttir og Igor Antić 20.11.2021-30.01.2022
Efnisyfirlit / Contents Skrápur/SecondSkin . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3 Ráðhildur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 Igor . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 Skrápur / SecondSkin . . . . . . . . . . . . . . . . 10 Ráðhildur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14 Igor . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17 Vortex . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18 Vortex . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 27 Ferðalög . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 35 Journeys . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 51 Ráðhildur myndir/Photos . . . . . . . . . . . . . . 69 Igor myndir/Photos . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 92 = english
Skrápur/SecondSkin Skrápur/SecondSkin opnar hjá Listasafni Reykjanesbæjar, þann 20. nóvember 2021. Listasafn Reykjanesbæjar kynnir sýninguna Skrápur, með Ráðhildi Ingadóttur og Igor Antić. Sýningin fjallar um flótta og tilfærslur þjóða í heiminum. Nafnið Skrápur vísar í skjól sem líkaminn býr til sjálfur yfir tíma, fyrir utanaðkomandi áreiti. Einnig vísar orðið í skráp sem manneskjan kemur sér upp huga sínum til varnar. 3
Báðir listamennirnir hafa gert málefni þjóðaflótta og átaka sem af því hlýst að umfjöllunarefni í fyrri sýningum. Híbýli eða skjól er sá rammi sem heldur uppi tilveru lista samkvæmt ástralska heimspekingnum Elizabeth Grosz. Í bók sinni Chaos, Territory, Art: Deleuze and the framing of the earth, frá árinu 2008, segir hún að skilgreindir kraftar eins og þjóðarsvæði rammi inn og dragi fram gæði annarra hluta eða atburða; Það er ramminn sem byggir upp innihald, efni í samskáldaða sögu þjóða. Ef land væri ekki rammað inn, þá væru ekki til nein yfirráðasvæði. Það myndi ekki koma í veg fyrir það að hlutir væru til, en þeir hefðu ekki sömu merkingu og 4
væru án sjálfstæðrar tjáningar sem væri fær um að magna og breyta hinum lifandi líkama. Afmörkun yfirráðasvæðis gerir það að verkum að litir, áferðir, taktur, massi og þyngd fá aðra merkingu innan síns afmarkaða svæðis. Þetta gerir þeim mögulegt að hafa áhrif á manneskjuna, koma af stað hughrifum sem eru dregin út frá svæðinu sem, þegar best lætur, verður túlkað á sviði lista. Listasafn Reykjanesbæjar er staðsett við alþjóðaflugvöll Íslendinga sem gerir Reykjanesbæ af fjölmennasta landamærabæ landsins. Íbúasamsetning bæjarins er sú fjölmenningarlegasta á Íslandi en um 30% íbúa með fasta búsetu eru erlendir, einnig tekur Reykjanesbær á móti flóttamönnum með stór5
tækari hætti en flest önnur bæjarfélög á landinu. Með umhverfi bæjarfélagsins í huga ákvað safnstjóri að setja upp sýningu sem fjallar um hugmyndina að leita skjóls. Verk eftir Igor Antić, á sýningunni Skrápur, er unnið í samvinnu við Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. Sýningin stendur til og með 30. janúar 2022. Sýningarstjóri er Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar. Sýningin er styrkt af Myndlistasjóði.
Ráðhildur Ráðhildur Ingadóttir (1959) vinnur með ákveðna hugmyndafræði í verkum sín6
um sem hún útfærir í marga miðla; texta, teikningu, málun, skúlptúr og myndbönd, og er framsetning þeirra jafnan í margslungnum innsetningum. Ráðhildur hefur haldið margar einkasýningar, sú fyrsta var í Nýlistasafninu árið 1986, og verið valin til þátttöku á samsýningar bæði hér á landi og víða um Evrópu. Verk eftir hana eru í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins. Ráðhildur hefur unnið víðs vegar sem sýningarstjóri, árin 2013 og 2014 hlaut hún heiðursstöðu sem listrænn stjórnandi Skaftfells - miðstöðvar myndlistar á Austurlandi. Ráðhildur stundaði nám í myndlist á Englandi 1981–1986, við Emerson 7
College in Sussex og St. Albans College of Art and Design. Hún var stundakennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, 1992–2002, og einnig gestakennari við Konunglegu myndlistarakademíuna í Kaupmannahöfn. Ráðhildur var í stjórn Nýlistasafnsins 2000–2002. Hún hefur hlotið hin ýmsu starfslaun og styrki bæði á Íslandi og í Danmörku. Ráðhildur er fædd í Reykjavík, hún býr og starfar í Kaupmannahöfn og Seyðisfirði.
Igor Igor Antić (1962) kannar hugtök í staðbundnum (e. site-specific) verkum, innan tiltekins samhengis sem getur verið 8
pólitískt, efnahagslegt, menningarlegt og samfélagslegt. Verkin birtast í mismunandi miðlum, eins og ljósmyndum, myndböndum og innsetningum. Antić hefur haldið fjölmargar einkasýningar og verið valinn til þáttöku á samsýningar víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Þar á meðal hefur hann áður sýnt á Íslandi í Nýlistasafninu á sýningunni Polylogue 158 árið 1999. Antić var sýningarstjóri Values: 11th Biennial of Visual Arts í Pancevo, Serbíu, árið 2004. Antić nam myndlist á árunum 1984– 1991, við Novi Sad Academy of Fine Arts, Serbíu, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts, París, og Institut 9
des Hautes Etudes en Arts Plastiques, París. Árið 1995 stofnaði hann Pokret Encounter Centre í Novi Sad, Serbíu, hreyfingu listamanna á stríðstímum. Antić hefur unnið til ýmissa verðlauna m.a. hlaut hann The Pollock-Krasner Foundation’s Grant í New York árið 2000. Antić er fæddur í Novi Sad, Serbíu, hann býr og starfar í París.
Skrápur / SecondSkin Skrápur / SecondSkin opens in Reykjanes Art Museum on the 20th of November 2021. Reykjanes Art Museum presents the ex-
10
hibition SecondSkin with Ráðhildur Ingadóttir and Igor Antić. The exhibition tackles refugees and migration of people in the world. The title SecondSkin refers to the shelter that the body creates over time from external aggravation. The word also refers to the thick skin people develop mentally as a defence. Both artists have discussed human displacement and conflict in their earlier works and exhibitions. Dwelling or shelter is the frame that supports the existence of art according to the Australian philosopher Elizabeth Grosz. In her book Chaos, Territory, 11
Art: Deleuze and the framing of the earth, from 2008, she claims that forces such as national areas frame and bring forth the quality of other things or events; It is the frame that builds up content, material for a collaborative fictional history of nations. Were a country not bordered, there would be no territory. That would not obstruct things existing, but they would not have the same meaning and would be without independent expression capable of intensifying and transforming the living body. The demarcation of territory causes colour, texture, rhythm, mass, and weight to take on a different meaning within the boundaries of the defined territory. This makes it possi12
ble to affect people, conjure impressions that are extracted from the area, which, at best, is interpreted in the field of art. Reykjanes Art Museum is in the vicinity of Iceland’s international airport, which makes Reykjanesbær the most populous border town in Iceland. The demographic of the town’s population is the most multi-cultural in Iceland, as 30% of residents with permanent residence in the town are foreigners, furthermore Reykjanesbær receives a significantly larger number of refugees than most other municipalities in the country. With the community’s environment in mind, the museum director decided to produce an exhibition revolving around 13
the idea of seeking shelter. The work by Igor Antić, in the exhibition SecondSkin, was created in collaboration with MSS – Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum. The exhibition is open until 30 January 2022. Curated by Helga Þórsdóttir, museum director of Reykjanes Art Museum. The exhibition is sponsored by the Visual Arts Fund.
Ráðhildur Ráðhildur Ingadóttir (1959) works within a particular ideology in her works
14
that she implements in various media; text, drawing, painting, sculpture, and video, often presented in multi-layered installations. Ráðhildur has held numerous solo exhibitions, the first was in the Living Art Museum in 1986, and she has been asked to participate in group exhibitions both in Iceland and all over Europe. Works by Ráðhildur are in the collections of the National Gallery of Iceland, Reykjavik Art Museum, and the Living Art Museum. Ráðhildur has also curated several exhibitions and in 2013 and 2014 she was awarded an honorary position as the artistic director of Skaftafell – centre of visual art in East Iceland. 15
Ráðhildur studied fine art in England from 1981 to 1986 at Emerson College in Sussex and St Albans College of Art and Design. She was a part-time lecturer at the Icelandic College of Arts and Crafts and the Iceland Academy of the Arts from 1992-2002, in addition to being a guest teaches at the Royal Academy of Fine Art in Copenhagen. Ráðhildur was on the board for the Living Art Museum from 2000 to 2002. She has received various stipends and grants both in Iceland and in Denmark. Ráðhildur is born in Reykjavik but splits her time between Copenhagen and Seyðisfjörður.
16
Igor Igor Antić (1962) explores the concepts of site-specific works, within a certain context that may be political, economic, cultural, and societal. His works appear in various media, such as photography, video, and installation. Antić has held several solo exhibitions and been selected to participate in group exhibitions all over Europe, the United States, and Asia. He has for instance exhibited in Iceland in the Living Art Museum in the exhibition Polylogue 158 in 1999. Antić curated Values: 11th Biennial of Visual Arts in Pancevo, Serbia in 2004. 17
Antić studied fine art from 1984 – 1991 at Novi Sad Academy of Fine Arts in Serbia, École Nationale Supérieure des Beaux-Arts in Paris, and at the Institut des hautes Etudes en Arts Plastiques in Paris. In 1995 he founded Pokret Encounter Centre in Novi Sad, Serbia, a movement of artists during the war. Antić has received several arwards, such as the Pollock-Krasner Foundation’s Grant in New York in 2002. Antić is born in Novi Sad, Serbia, but lives and works in Paris.
Vortex
Ráðhildur Ingadóttir Um langt skeið hefur myndlist Ráðhildar Ingadóttur mótast af hugmynd-
18
um um rúmfræðilega vörpun og hliðrun í rými og tíma. Þessi þáttur í list hennar á meðal annars rætur sínar að rekja til tengsla Ráðhildar við fræðimanninn Olive Whicher snemma á myndlistaferlinum. Lykiláhrif Whicher byggja á hugmyndum hennar um rúmfærðilega vörpun, nokkuð sem kemur skýrt fram í bók Whicher, Projective Geometry: Creative Polarities in Space and Time sem hún gaf út árið 1970. Aðferðafræði Whicher hefur í reynd litað allan myndlistaferil Ráðhildar. Þær unnu saman að geometrískum útfærslum í myndlist á níunda áratug síðustu aldar og flest verk Ráðhildar mótast af hugmyndum um geómetríska vörpun í rými. Iður / Vortex er kaflaskipt myndverk sýnt 19
í fremri sal Listasafns Reykjanesbæjar. Kaflarnir eru ekki merktir hver fyrir sig í rými safnsins því það sem birtist í salnum á sýningunni er allt hluti af einu og sama verkinu. Ráðhildur hóf vinnu við fyrsta kafla verksins árið 1998, en verkið samanstendur af 500 flíspeysum með silkiprentuðum teikningum af iðum sem eru tákn fyrir hreyfingu heimsins alls. Í framhaldi af upphaflegri gerð verksins fór fjölfeldið, „flíkurnar“, í dreifingu á vegum Rauða krossins sem ákvað hvar þörfin fyrir slíkar flíkur væri mest á þeim tíma. Stríð geisaði þá í landi sem áður hét Júgóslavía og varð því sá staður fyrir valinu. Líta má á verkið sem gjörning sem byggir á aðferðafræði vörpunar, í því 20
hvernig verkinu er varpað inn í ástand og aðstæður fólks án þess að listamaðurinn velji lengd, stærð eða útbreiðslu efniviðsins. Á sama tíma er efniviðnum þó gefinn rammi, svæði sem er skýrt afmarkað af landamærum og manneskjunum innan þeirra. Ramminn aðskilur, hann sker sig inn í miðju rýmis. Það að skera niður rými jarðarinnar með því að búa til ramma er nákvæmlega það sem setur saman hús og yfirráðasvæði, innanhúss og utanhúss, hið innra og landslag, á sama tíma og það sýnir hámarks breytileika beggja vegna rammans. Listgreinar birta uppbyggingu efnisins sjálfs, þær taka út liti, takt og hreyfingu úr óreiðunni til þess að hægja á tíma og afmarka svæði, á sama tíma og þau 21
gangast undir endursköpun sem skapar nýjan samhljóm með líðandanum á hverjum stað fyrir sig. Umhverfið endurmótar þannig myndverkið; vegna þess er það breytilegt á öllum tímum eins og alheimurinn sjálfur og allt sem í honum er. Þannig urðu þeir líkamar sem fengu skjól og yl með því að klæðast Vortex-verki Ráðhildar óafvitandi beinir gerendur í þróun myndverksins. Listhluturinn hefur umbreyst með notandanum þau 23 ár sem Vortex hefur varið eigendurna fyrir áreiti umhverfisins. Rosi Braidotti veltir í bók sinni, Metamorphoses: Towards a Materialist Theory of Becoming, fyrir sér þeirri staðreynd að flestir horfðu á þjóðernishreinsanir á landssvæðum gömlu Júgóslavíu í 22
þægindum úr sjónvarpinu heima eins og um óraunverulega atburði væri að ræða. Sýndarveruleiki flóttafólks, farandverkamanna og hælisleitanda er ekki mjög hátæknilegur, heldur frekar eins og flóðlýst nafnleysi og félagslegur ósýnileiki. Hann birtist í netheimum, sem eru í ofanálag mjög umdeilt félagsrými, þar sem félagslegum samböndum er stjórnað með miðluðu flæði upplýsinga. Sem afleiðing af þessu er hin verufræðilegi raunveruleiki sem þeim fylgir ekki lengur vísindaskáldsaga, heldur félagslegur raunveruleiki samtímans. Vortex þróaðist upphaflega á vettvangi styrjaldar. Ráðhildur vitjaði hans aftur 20 árum síðar og endurheimti, með hjálp Rauða krossins þrjár peysur úr upphaf23
lega verkinu auk þess að komast í beint samband við notendur fjölfeldanna. Þetta er gert sýnilegt í kvikmyndum Ráðhildar, Gordana, Zora, Goran, Vladimir og Sladjana, sem eru teknar inn á heimilum fólksins sem þurfti að leita skjóls hjá Rauða krossinum og fékk við það tækifæri gefins peysu eftir Ráðhildi Ingadóttur á sínumtíma. Þessar kvikmyndir veita áhorfendum í safninu innsýn inn í þá krafta sem tóku þátt í mótun á Vortex, ramma fyrir ramma upplifir áhorfandinn áferðir og umhverfi viðmælandans án þess að sjá andlit fólksins eða texta, Gordana, Zora, Goran, Vladimir eða Sladjana. Orðin eru taktur, áferð og fagurfræðilegt framlag kvikmyndanna. Þannig er mennskunni 24
gefið rými án þess að andlit persónanna sé sýnt, myndirnar eru portrett án andlits. Andsjálfur! Verkin: Eldspýtustokkur, Yugo, Lampi og Fjölskyldudýrlingur, eru stækkaðir og minnkaðir hlutir úr bývaxi sem upphaflega voru á heimilum viðmælendanna. Hlutirnir eru táknrænir fyrir staðinn, fólkið og tímann. Skúlptúrarnir eru rýmisportrett, vörpun aftur í tímann, táknmyndir fyrir þekkta framleiðslu sem í nútímanum er merkingahlaðin um aðskilnað á milli landsvæða. Berlínarmúr! Verkið Vinklar eru 60 silkiþrykktir bolir með teikningum og texta, hengdir á endurnýtt vírherðatré. Texti bolanna kemur að mestu úr kvikmyndun25
um Gordana, Zora, Goran, Vladimir og Sladjana. Hér erum að ræða vörpun orða sem borist hafa frá manneskjum úr einum ramma sem leysist upp í 60 fjölfeldi sem í kjölfarið skellur á persónum annarsstaðar, dregur í sig ný form og umbreytist með sama hætti og eldri fjölfeldin, peysurnar, leiddu listamanninn til móts við eigendur orðanna. List notar óreiðu alheimsins til skynhrifa á lifandi holdi í stað þess að hafa hugveruna sem viðmið þess sem upplifir. Sýning Ráðhildar magnar skynhrif okkar og gerir áhorfandann meðvitaðan um rými tímans í samhengi alheimsins. Hún er ferli sem opnar fyrir hughrif sem leiða okkur áhorfendur inn í mögulega framtíð myndverksins Iður / Vortex. 26
Vortex
Ráðhildur Ingadóttir Ráðhildur Ingadóttir‘s art has long been shaped by ideas on geometric projection and shifting in space and time. This aspect of her art is in part rooted in her early connection to the scholar Olive Whicher. Whicher’s key impact stems from her ideas on geometric projection, clearly expounded on in her book Projective Geometry: Creative Polarities in Space and Time, published in 1970. Whicher’s methodology has in fact coloured the whole of Ráðhildur’s artistic career. They collaborated on geometric execution in art in the 1980s, and most of Ráðhildur’s work is shaped by ideas on projective geometry in space. 27
Vortex is a sectionalised work of art on display in the front exhibition space of Reykjanes Art Museum. The sections are not individually labelled in the museum’s space because what is on display is all a part of the same work of art. Ráðhildur started working on the first section in 1998, but the work is composed of 500 fleece sweaters with silk print drawings of vortexes, which symbolise the movement of the entire world. After the original implementation of the work the multiples, “the clothing”, was distributed by The Red Cross to conflict areas where that sort of clothing was most needed. At the time, there was war in a country that was then known as Yugoslavia, which 28
was the chosen destination for the clothing. The work can be seen as a performance, based on the methodology of projection, in how the work is projected into a situation and people’s circumstances without the artist choosing the length, size or distribution of the material. At the same time, the material is still subjected to a frame, an area clearly defined by boundaries and the people within them. The frame dissects, it cuts through into the centre of the space. Dissecting the Earth’s space by creating frames is exactly what composes houses and territories, inside and outside, the inner and landscapes, at the same time as it displays the maximum oscillation on both sides of the frame. 29
Fields of art reveal the composition of the material itself; they extract colour, rhythm, and movement out of chaos to slow down time and create a defined area, while ar the same time undergoing recreation that generates a new harmony in each given time in each given place. Thus, the environment reshapes the work of art, because it is changeable in all times like the universe itself and everything in it. Thus, the bodies that acquired shelter and warmth by wearing Ráðhildur’s work Vortex unknowingly became actors in the development of the work. The work of art has transformed with the user in the 23 years that Vortex has protected the wearers from the aggravations of the environment. 30
In the book Metamorphoses: Towards a Materialist Theory of Becoming, Rosi Braidotti ponders the fact that most people watched the genocides in former Yugoslavia on television from the comfort of their own homes, as if these events were unreal. The virtual reality of refugees, migrant workers, and asylum seekers is not very high-tech, but rather a floodlighted anonymity and social invisibility. It appears in cyber space, online, which is on top of everything a very controversial social space, where social relations are controlled with mediated flow of information. The consequence of this is that the incidental ontological reality is no longer science fiction but rather the social reality of our times. 31
Vortex originally developed in the context of war. Ráðhildur found her way back to the work 20 years later and with the help of The Red Cross she recovered three sweaters from the original work, in addition to getting into direct contact with the users of the multiples. This can be seen in Ráðhildur’s films, Gordana, Zora, Goran, Vladimir, and Sladjana, which were filmed in the homes of the people that had sought refuge with The Red Cross at the time and were given the sweaters made by Ráðhildur Ingadóttir. These films offer an insight to the forces that participated in creating Vortex, frame for frame the viewers experience the texture and environment of the in32
terviewees without seeing their faces or subtitles , Gordana, Zora, Goran, Vladimir or Sladjana. The words are rhythm, texture, and an aesthetic contribution of the films. Thus, humanity is awarded space without showing the faces of the persons, the films are portraits without faces. Anti-selfies! The works: Matchbox, Yugo, Lamp, and Family Saint, are enlarged and shrunk objects from beeswax, modelled on objects from the interviewees’ homes. The objects are symbolic for the place, the people, and the times. The sculptures are spatial portraits, projections back in time, symbols for known products that today are loaded with meaning with regard to the dissection of land. Berlin Walls! 33
The works Angels are 60 silk print t-shirts with drawings and text, hung on recycled wire hangers. The texts on the shirts are mostly mined from the films Grodana, Zora, Goran, Vladimir, and Sladjana. Here we have the projection of words that have come from people in one frame that dissolves into 60 multiples that in turn hit people elsewhere, they take on a different form and metamorphose in the same way that the older multiples, the sweaters, led the artist to the owners of the words. Art uses universal chaos to conjure sensory experience in living flesh instead of having the mental being as the criteria for experiencing. Ráðhildur’s exhibi34
tion intensifies our senses and makes the viewer aware of the space of time in context of the universe. It is a process that creates an opening for impressions that lead us, the viewers, into a possible future of the work Vortex.
Ferðalög Igor Antic
Hvaða tengsl eru á milli verka Igors Antic og orðsins „Skrápur“? Það mætti skilja þau sem myndun þekkingar fræðilegra laga sem verða til í mismunandi skapandi ferlum. Í þessum lögum sjást listrænar hugmyndir hans, hvort sem þær eru fullmótaðar eða ófullgerðar, hvort sem þær eru gagnrýni eða frávik, misræmi eða op, eða þörf listamanns35
ins fyrir að svala forvitni sinni. Þetta eru blöðrurnar sem verða óhjákvæmilega til við vinnuna og gróa síðan. Listamaðurinn gerir ekki tilraun til að fela þessi lög, heldur leyfir þeim að sjást til vitnis um þá leið sem farin var. Verkin sex á þessari sýningu eru öll samtengd. Þeirra á meðal eru þrjú vídeóverk með svipuð umfjöllunarefni en frá mismunandi sjónarhornum. Umhverfis vídeóin eru hlutir sem falla að sögunum og færa þær nær veruleika safnrýmisins. Almenna umfjöllunarefnið hér eru ferðalög, bæði raunveruleg og ímynduð. Í gegnum listaverkin og umgjörðina alla reynir Igor Antic að greina ástæðurnar fyrir ferðum fólks, ferðavenjum þess 36
og -mátum, sem og vali þess á áfangastað. Draga mætti veigamesta atriði allra áfangastaðanna hér saman í eina línu: list sem athvarf. Nánar tiltekið leiðir stefna allra verkanna sex, það er allra ferðalaganna sex, óhjákvæmilega að listrænu frumatriði, óháð því hversu margir félagslegir, pólitískir eða landfræðilegir þættir eru til staðar. Listamaðurinn tekur einnig reynslu sína sem innflytjandi inn í myndina og breytir henni í listaverk. 1. „Tímavélin“ Vídeó. Snið: mp4. Spilunartími: 7 mínútur. 10 form úr áli. Áltrappa. 2021 Innblásturinn að þessu vídeói er sóttur í 37
vísindaskáldskaparmynd George Pal frá 1960, Tímavélina (e. The Time Machine). Rétt eins og aðalpersónan í myndinni ferðast listamaðurinn til skiptis aftur til fortíðar og til fjarlægrar framtíðar, en snýr loks aftur til nútímans, daginn sem sýningin er opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar. Listamaðurinn gegnir þó ekki hlutverki hetjunnar hér. Hann lítur meira út eins og hrukkótt skuggamynd sem mótast í sífellu af náttúruöflunum. Lögð er áhersla á ferðalagið á milli ólíkra tímabila með frásögn í stað þess að nota tæknibrellur, um leið og form tímavélarinnar er laust við upprunalega fagurfræði sína. Hér notar listamaðurinn litla áltröppu og gefur henni hlutverk vélar 38
til tímaflakks. Hann notar því lélegan og frekar ómerkilegan leikmun en lætur ímyndunarafl áhorfandans um að ljá honum virkni. Í raun og veru er tækið hreyfingarlaust. Einungis skýin breytast, vindurinn og vatnið er á hreyfingu og birtan í bakgrunninum er breytileg. Gegnum allt þetta „kyrrstæða“ ferðalag segir rödd þularins okkur uppspunna sögu um þróun listarinnar. Þetta vídeó er staðbundið listaverk, í anda in situ-hefðarinnar, þar sem hugmyndin að verkinu fæðist, það verður að veruleika og er sýnt á sýningarstaðnum. Í ágúst 2021 vann Igor Antic Tímavélina hingað og þangað á Reykjanesskaganum. Í því skyni valdi hann mismunandi staði í náttúrunni, til dæmis eldfjallið 39
Fagradalsfjall, svarta fjöru, mosavaxið hraun, hæðir … og ýmsa staði í nágrenni Listasafns Reykjanesbæjar, á borð við sjóvarnargarða, stíga, hringtorg, Skessuhelli og bátinn Baldur. Undirbúningsrannsókn á staðnum gerir honum kleift að kynna sér samhengið og draga fram í dagsljósið tiltekna undirliggjandi þætti viðkomandi staðar. Nálægt skjánum þar sem Tímavélin er sýnd er tólf myndlausum gylltum og silfruðum formum úr áli dreift óskipulega á jörðina. Þau birtast sem kristölluð brot úr tíma kvikmyndarinnar og kalla fram samtal þar sem takast á skáldskapur og raunveruleiki; nánd og firð; frumleiki og hversdagsleiki; hryllingur og töfrar. 40
2- „Við þurfum nýjar minningar“ Hundruð álpappírsblaða með teikningum. Tuttugu og ein ljósmynd í lit, 40 x 30 cm hver. 2021. Getum við munað nákvæmlega eftir einhverju sem við þráðum eða við neyddumst til að skiljast við? Í þessu þátttökuverki, sem var gert sérstaklega fyrir sýninguna, býður Igor Antic innflytjendum frá mismunandi löndum sem búa á Reykjanesskaganum að teikna útlínur ættlands síns eftir minni. Þeir rissa upp útlínur landanna á álpappírinn með rauðum tússpennum; stundum endurtaka þeir línurnar og reyna að lagfæra þær. Engu máli skiptir hversu nákvæm eða haganleg teikn41
ingin er, heldur er upprifjunin aðalatriðið. Teikniferlið er ljósmyndað. Síðan eru öll blöðin krumpuð saman og þeim raðað á gólfið þannig að þau myndi þrívíða teikningu í sýningarsalnum. Frá einu krumpuðu blaði til þess næsta birtast rauðar útlínur nýs lands. Þannig er Damaskus við hlið Belgrad; Kúrdistan við hlið Rómar, Karakas við hlið Vilníus. Þessi samvinnuteikning birtist aftur og aftur án samhengis, undirstrikuð af gljáandi áferð álpappírsins, eins og agnarsmár fjallgarður. Í gegnum sýninguna endurnýjast hún og breytist, eftir því sem nýjum krumpuðum álpappírsblöðum er bætt við þau sem fyrir eru. Gestunum er boðið að halda áfram að endurskapa landamærin og slóðirnar að vild og styrkja endurheimt bræðralagið. 42
Á móti býður listamaðurinn þeim innflytjendum sem taka þátt teikningar af sínu eigin upprunalandi, sem einnig eru gerðar eftir minni. 3. „Okkar sanna eðli“ Vídeó. Snið: mp4. Spilunartími: 5 mínútur. Gúmmíteygjur. 2021. Í þessu vídeóverki er blandað saman lögmálum vísindanna og listrænum aðferðum við myndræna framsetningu. Strengjafræði er ein tilraun til að svara spurningunni: Hvernig varð alheimurinn til og úr hverju er hann? Hér er strengjafræðin notuð sem myndlíking fyrir hreyfingu einstaklingsins. Einstaklingar sem eru kallaðir „I-1“, „I-2“, „I-3“ o.s.frv. 43
hreyfast um landslag Íslands, rétt eins og öreindir hreyfast um himingeiminn, og reyna um leið að útskýra ferlana á rökrænan og sjónrænan hátt. Rétt eins og vísindamenn sem reyna að útskýra feril öreindar í alheiminum. Gúmmíteygjurnar eru hér notaðar bæði sem persónur og sem brenglaðar skýringarmyndir . Vídeóið er skopstæling á vinsælum vísindalegum verkum sem opna huga okkar en einfalda um leið heimssýn okkar. Þannig er annar hluti vídeósins í formi vinsæls sjónvarpsþáttar en hinn hlutinn gagnrýni á vinsæl verk af þessu tagi. Til viðbótar við vídeóið er sýnd fimmtán metra löng vegginnsetning úr hundruðum gúmmíteygja, mismunandi að lögun. 44
Sumar eru agnarsmáar og aðrar stærri, en allar hafa sín eigin sérkenni og virka eins og alheimur í útþenslu. Listamaðurinn leggur til yfirlitsmynd af þessum alheimi. Þannig gefst áhorfendum kostur á að kynna sér allar „aðalpersónurnar“ í sjónleiknum Okkar sanna eðli. 4. „Staðreyndir-afleiðingar-tilgáta“ Vídeó. Snið: mp4. Spilunartími: 8 mínútur. 3 ljósmyndir, 28 x 21 cm hver. 2007–2009. Stefnurnar í þessu vídeói eru blandaðar. Tvær að því er virðist ótengdar sögur fléttast saman, önnur er um stríðið í fyrrverandi Júgóslavíu og hin um Brillo-kassa Andys Warhol. Samhengi beggja er frá persónulegum sjónarhóli, án þess að lagður sé siðferðislegur dómur á þær. 45
Á sama tíma er varpað fram nokkrum spurningum um spákaupmennsku á listmarkaðnum. Þetta vídeó er hluti af röð (Staðreyndir-afleiðingar-tilgáta #1, Staðreyndir-afleiðingar-tilgáta #2 o.s.frv.) þar sem fólk af ólíkum kynjum, á ólíkum aldri og af ólíkum kynþáttum segir sömu söguna á mörgum tungumálum og leggur þar með sitt af mörkum til að fjölfalda hana, á sama hátt og Brillo-kassarnir voru fjölfaldaðir. Ásamt vídeóinu eru á sýningunni nokkrar ljósmyndir af ósviknum Brillo-kassa sem tengjast sögunni. 5. „Ólokið form #18“ 3 ljósmyndir í lit, 60 x 45 cm hver. 40 taublóm, 70x70 cm hvert. 2021. 46
Ólokið form #18 er verk sem var gert sérstaklega fyrir þessa sýningu. Fjörutíu blóm, blá, hvít og rauð, sem hvert og eitt hefur að geyma einn hraunmola, eru fyrst ljósmynduð í íslensku landslagi. Síðan er þeim komið fyrir á gólfi safnsins þannig að þau myndi garð. Gestir geta gengið um og skoðað þau. Öll Óloknu formin eru hluti af víðtækara verkefni sem listamaðurinn hóf árið 2018. Hann býr til hluti í formi gerviplantna eða -blóma, sem eru öll mismunandi (Ólokið form #1, Ólokið form #2 o.s.frv.), og á þau eru skrifaðar ýmsar spurningar. Þessar spyrjandi plöntur gegna hlutverki leikmuna til að rannsaka mismunandi samhengi sem unnt 47
er að setja list fram í, svo og samþykki eða höfnun á henni. Listamaðurinn ferðast og á ferðum hans verða plönturnar tímabundið hluti af landslaginu eða þéttbýlissvæðum. Smátt og smátt vaxa þær, skjóta greinum og blómstra, rétt eins og raunverulegar plöntur. Spurningafjöldinn eykst að sama skapi, og smættar allt vinnuferli listamannsins niður í eina grundvallarspurningu: Gerir list eitthvað annað en að spyrja spurninga? 6. „Ferilmynd – frá 12. nóvember 1962“ Verk í vinnslu. Stækkanleg pappamappa 34,5 x 25,5 x 10 cm, prentuð pappírsblöð. „Ferilmynd – frá 12. nóvember 1962“ er samfelldur ferill ferða og listrænnar starfsemi Igors Antic, frá fæðingu 48
hans til opnunardags sýningarinnar í Listasafni Reykjanesbæjar. Þessi myndræna framsetning á lífi hans er byggð á raunverulegum gögnum, minnispunktum og skjölum sem hann hefur safnað saman af mikilli nákvæmni án þess að spinna nokkuð upp. Útkoman er um þrjú hundruð síðna löng tímalína tengd við bók, sem er uppfærð daglega með nýjum upplýsingum um ferðir listamannsins og viðburði sem hann tekur þátt í. Hvorki eru gerðar athugasemdir við gögnin sem sett eru fram né eru þau útskýrð, og engar ljósmyndir fylgja þeim. Þetta eru myndir í sjálfu sér. Staðir (borgir, þorp, þjóðgarðar, eyjar, fornleifasvæði o.s.frv.) eru skráðir myndrænt á nákvæmar staðsetningar inn49
an ramma myndarinnar. Til dæmis er Reykjavík, París eða Novi Sad alltaf sýnd í sömu „hæð“, sem listamaðurinn skilgreindi í upphafi. En þessar staðsetningar samsvara engum landfræðilegum hnitum. Þetta er miklu fremur huglægt kort listamanns sem á sér sín eigin hnit. Þegar fyllt hefur verið upp í einn ramma, á þeim stað þar sem síðasta lína endaði, hefst fyrsta línan í næsta ramma. Þannig er hægt að fylgja kortinu bæði aftur á bak og áfram. Þetta listaverk er afraksturinn af þörf listamannsins til að skrá og birta sjónrænt ferðir sínar og það sem hann tekur sér fyrir hendur, þar sem þetta tvennt fer yfirleitt saman. Ferilmyndin er einnig til marks um stöðuga vöku lista50
mannsins yfir verkum sínum. Fyrsta myndin hefst á eyðu, eins og tóminu fyrir fæðingu. Sýningarstarfsemi hefur verið skráð frá 1985 og er stundum mjög áköf og stundum dauf. Þannig birtast hreyfiöfl kortsins sjálfs, sem gætu minnt á hjartslátt eða landslag með trjám. En þrátt fyrir tilteknar tengingar eða tilfinningar sem hægt væri að eigna þessu listaverki er það í eðli sínu vitnisburður um vinnu, hvorki meira né minna.
Journeys
Igor Antić
What is the connection between Igor Antić’s works and the word Skrápur? It could be understood as formation
51
of epistemological layers, accumulated during different creative processes. These layers reveal his artistic concepts, whether they are complete or imperfect, whether they are criticisms or deviations, inconsistencies or openings, as well as the artist’s need to satisfy his own curiosity. While working, blisters will inevitably appear and heal. The artist does not try to hide those layers but rather leaves them visible as witnesses of the path taken. The six works displayed in this exhibition are all interconnected. Among them, there are three video works that deal with similar topics but from different points of view. The videos are surrounded with objects which complement 52
the stories and bring them back to the reality of the museum space. The general concern here are journeys, real ones and imaginary ones. Through the works of art and the setting of the whole, Igor Antić tries to analyse the reasons for people’s migrations, their ways and means of travel, as well as their choices of final destination. The sum of all destinations here could be summarised in one sentence: Art as shelter. Namely, the course of each of the six works, that is, each of the six journeys, inevitably leads to some artistic principle, regardless of how many social, political or geographical factors there are. The artist also includes his own immigr53
ant’s experience and turns it into artifacts. 1. The Time Machine Video. Format: mp4. Running time: 7 minutes. 10 Aluminium shapes. Aluminium Stepladder. 2021. The inspiration for this video comes from George Pal’s 1960 science fiction film The Time Machine. Like the main character in the movie, the artist alternately travels into the past and into the distant future, to finally return to the present, the day of the exhibition’s opening at Reykjanes Art Museum. But the artist has no heroic role here. He looks more like a wrinkled silhouette that the 54
elements are constantly sculpting. The crossing through different eras is accentuated by narration instead of using special effects, while the shape of the Time Machine is freed from its original aesthetics. In fact, the artist employs a small aluminium stepladder and gives it the role of an engine for the time travel. He thus operates a poor, almost banal prop and lets the imagination of the spectator activate it. In reality, the device is motionless. Only the clouds change, the wind and water move and the light varies in the background. Throughout that static journey, the narrator’s voice tells us a fictional story about the evolution of art. 55
This video is part of the in situ tradition, where the work is conceived, realised and shown (projected) directly in the exhibition spot. During August 2021, Igor Antić realised the Time Machine all around the Reykjanes Peninsula. For that purpose, he chose different locations in nature, such as the Fagradalsfjall volcano, black beach, moos-covered lava fields, hills… as well as some places around Reykjanes Art Museum, such as sea dams, paths, traffic roundabouts, Skessuhellir, and the Baldur boat. A preliminary location study allows him to become familiar with the context and to bring to light certain underlying aspects of a place. Near the projection screen of Time 56
Machine, a dozen amorphous golden-silver aluminium shapes are freely distributed on the ground. They are presented as crystallised fragments of cinematic time and evoke a dialectic of fictional-real, near-far, original-unremarkable, frightening-enchanting. 2. We Need New Memories Hundreds of aluminium sheets carrying the drawings. Twenty-one colour photographs, 40x30cm each. 2021. Can we accurately remember something we wanted or were forced to give up? Can we really reproduce a memory of a familiar shape in detail? In this participatory work, created especi57
ally for the exhibition, Igor Antic invites immigrants from different countries who live on the Reykjanes peninsula to draw the shape of their native country from memory. They quickly sketch the outlines of these countries onto the aluminium sheets by using red markers, sometimes repeating their gestures and trying to improve them. No matter how precise or skilful the drawings are, only the recollection matters. The drawing process is photographed. Then, all the sheets are crumpled and lined up on the floor, in order to create a 3D drawing in the exhibition room. From one crumpled sheet to the next, the red outlines of a new country appear. Thus, Damascus sits next to Belgrade, Kurdistan next to Rome, Caracas next to Vilnius. This 58
collective drawing reappears discontinuously, accentuated with the shiny aluminium reliefs, like a miniature mountain range. It is renewed and modified throughout the exhibition, as other crumpled aluminium sheets are added to the previous ones. The visitors are invited to continue to recreate the boundaries and paths at will and to reinforce the idea of the recovered fraternity. In exchange, the artist offers the participating immigrants drawings of his own country of origin, also made from memory. 3. Our True Nature Video. Format: mp4. Running time: 5 minutes. The elastic bands. 2021. 59
This video mixes scientific principles and artistic methods of visual representation. String Theory is one of the attempts to answer the question: How did the universe come into being and what is it made of? Here, String Theory is used as a metaphor of the one’s movement. Individuals called I-1, I-2, I-3, etc. move through the Icelandic landscape just like elementary particles move through the space and at the same time try to logically and visually explain their trajectories. Just like scientists who try to explain the trajectory of a particle in the universe. The elastic bands are used here both as characters and as twisted representation models. 60
The video is a parody of the science popularisation works that open our minds and at the same time simplify our vision of the world. So, one half of the video is done as a popular TV series and the other half as a critique of such a popularisation. In addition to the video, there is a fifteen meters long wall installation made of hundreds of elastic bands of different forms on display. From very small to larger ones, they all have their own specificities and act as an expanding universe. The artist proposes a panoramic view of that universe. So, the audience has the opportunity to study all the protagonists of the Our True Nature drama. 61
4. Facts-Consequences-Hypothesis Video. Format: mp4. Running time: 8 minutes. Three photographs 28x21cm each. 2007-2009. The genres in this video are mixed. Two seemingly unrelated stories intertwine, one about the war in former Yugoslavia and the is other about Andy Warhol’s Brillo boxes. The context of both is told from a personal point of view, without moral judgment. At the same time, several questions are being asked about speculation in the art market. This video is part of a series (Facts-Consequences-Hypothesis #1, Facts-Consequences-Hypothesis #2, etc.) in which people of different gender, age, and race tell an 62
identical story in multiple languages and thus contribute to its multiplication, in the same way that Brillo boxes were multiplied. Along with the video, the exhibition features some photographs of an authentic Brillo box that is related to story. 5. Unfinished Shape #18 Three Colour photographs 60x45cm each. 40 Flowers made out of fabric, 70x70cm each. 2021. Unfinished Shape #18 is the work realised specially for this exhibition. Forty flowers, blue, white, and red, containing one piece of lava each, are first photographed in the Icelandic 63
landscape. They are then installed on the museum’s floor to form a garden. Visitors can walk around and contemplate them. All the Unfinished Shapes are part of a broader project that the artist started in 2018. He realises objects in the form of artificial plants or flowers, which are all different (Unfinished Shape #1, Unfinished Shape #2, etc.) and on which various questions are written. These questioning plants serve as props to examine the different contexts in which art can be presented, as well as its acceptance or refusal. The artist is travelling and during these travels the plants temporarily become part of the landscape or urban areas. Little by 64
little they grow, branch and flourish, just like real plants. The number of questions increases as well, reducing the whole process of the artist’s work to an essential question: does art do anything else but ask questions? 6. Trajectography – Since November 12, 1962 » Work in process. Expandable cardboard folder 34,5 x 25,5 x 10cm, printed paper sheets. Trajectography – Since November 12, 1962 is Antić’s continuous line of travel and artistic activities, from the moment of his birth to the day of the exhibition’s opening at the Reykjanes Art Museum. This graphic representation of his 65
life is based on true meticulously collected data, notes and documents, without improvisation. The result is a timeline of some three hundred pages linked to a book, which is updated daily with new information about the artist’s physical movements and events in which he participates. The stated data are not commented or explained, nor were they accompanied by photographs. These are images in themselves. Places (cities, villages, natural parks, islands, archaeological sites, etc.) are graphically noted at the precise positions within the image frame. For example, Reykjavik, Paris or Novi Sad are always presented at the same “height”, which was defined by the artist at the begin66
ning. But such positions do not correspond to any geographical coordinates. It is rather an artist’s mental map that has its own coordinates. When one frame is filled, at the point where the last line stopped, the first line in the other frame begins. Thus, the chart can be traced both backwards and forwards. This artifact is the result of the artist’s need to archive and visually display his activities and travels, because the two usually go together. The Trajectography is also proof of the artist’s constant vigil over his work. The first image begins with a gap, like the nothingness before its birth. Exhibition activities have been registered since 1985 and are sometimes very intense and sometimes weak. Thus, 67
the chart has its own dynamic, that may be reminiscent of a heartbeat or a landscape with trees. But despite certain associations or emotions that could be attributed to it, that artifact essentially remains a testimony of work, no less, no more.
68
Ráðhildur myndir/Photos
69
70
71
72
73
74
75
76
77
78
79
80
81
82
83
84
85
86
87
88
89
90
91
Igor myndir/Photos
92
93
94
95
96
97
98
99
100
Listasafn Reykjanesbæjar Skrápur / SecondSkin Sýningarstjóri: Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar Aðstoðarsýningarstjóri: Helga Arnbjörg Ljósmyndari: Vigfús Birgisson
101