Skip to main content

lej

Page 1

LISTASAFN

EINARS JÓNSSONAR


Safnið Árið 1909 bauð Einar Jónsson íslensku þjóðinni öll verk sín að gjöf með því skilyrði að reist yrði yfir þau safnhús. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1914 sem Alþingi Íslendinga þáði gjöfina. Alþingi lagði fram 10.000 krónur og í landssöfnun söfnuðust 20.000 krón­ ur. Óhætt er að fullyrða að landsmenn hafi frá upphafi sýnt fyrsta myndhöggvara sínum einstakan skilning og metið að fullu þjóðargjöf hans. Einar valdi safni sínu stað á Skólavörðuhæð „á eyðiholti í útjaðri bæjarins“ eins og hann orðar það í æviminn­ ingum sínum. Safnið var fyrsta byggingin á hæðinni og gerði Einar sér grein fyrir þeim möguleikum sem þessi hæsti sjónarhóll bæjarins bauð upp á. Líkt og aðra sam­ tíðarmenn hans dreymdi hann um hlutverk Skólavörðu­ hæðar sem háborg hins fullvalda ríkis. Húsið var reist eftir teikningu listamannsins og má því segja að safn­ byggingin sé hans stærsti skúlptúr, en þar vann hann verk sín, sýndi þau og bjó sér jafnframt heimili. Honum til aðstoðar við hönnun hússins var Einar Erlendsson arkitekt og undirrituðu þeir báðir uppdráttinn að húsinu í júní árið 1916, sama ár og hornsteinn var lagður að því.


Listasafn Einars Jónssonar var vígt á Jónsmessudag árið 1923. Voru það merk tímamót í íslenskri myndlist þar sem landsmenn eignuðust þar með sitt fyrsta listasafn. Turnhýsið er einstakt og útsýni þaðan eitt hið fegursta í Reykjavík. Þar bjuggu Einar og eiginkona hans, Anna Jörgensen sem var frá Danmörku, sér lista­ mannsheimili sem ber yfirbragð heimsborgara, búið sérsmíðuðum húsgögnum að hluta sem og listaverkum. Heimilið í turninum er hluti af safninu og er það varð­ veitt í upphaflegri mynd. Hlutverk safnsins er að safna, varðveita og sýna verk Einars Jónssonar og stunda rannsóknir á lífi hans og list. Safnið geymir hátt á þriðja hundrað verk sem spanna sextíu ára starfsferil; útskorin æskuverk, höggmyndir, málverk og teikningar. Við safnið er fagur höggmynda­ garður þar sem sýndar eru 26 bronsafsteypur af verk­ um listamannsins.


Einar Jónsson 1874-1954 Einar Jónsson var fyrsti íslenski myndhöggvarinn. Hann nam við Konunglega listaháskólann í Kaupmanna­ höfn á árunum 1896–1899. Einar sýndi fyrst opinber­ lega verkið Útlagar á Vorsýningunni í Charlottenborg í Kaupmanna­höfn árið 1901 og lagði þar grunninn að íslenskri höggmyndalist. Í Útlögum og fleiri verkum sínum frá fyrsta áratugi aldarinnar sótti Einar innblástur í íslenska þjóðsagna­ arfinn en vann einnig með goðfræðileg og trúarleg minni. Eftir dvöl í Róm 1902–1903 sagði hann skilið við natúra­lismann og gagnrýndi opinberlega klassísku listina sem hann taldi að staðið hefði listamönnum fyrir þrifum. Hann aðhylltist hinn germanska symbólisma, þar sem áhersla er lögð á hið hugmyndalega inntak verksins og hugmyndin tjáð með persónugervingum og þýðan­


Einar Jónsson var brautryðjandi íslenskrar höggmynda­ listar og áhrif hans á íslenska myndlist voru veruleg, þó að enginn gengi í smiðju hans. Hann fluttist alkominn til Íslands árið 1920, þá 46 ára gamall, og var búsettur hér til dauðadags árið 1954.

Útlit: Björg Vilhjálmsdóttir - Teikning: Halldór Baldursson - Prentun: Guðjón Ó

legum táknum eða færð í búning launsagnar. Í verkum sínum lagði hann áherslu á að listamanninum bæri að ryðja eigin brautir og þroska frumleika sinn en feta ekki í fótspor annarra. Kynni Einars af guðspeki árið 1910 sem og hugmyndum sænska guðfræðingins og vísinda­ mannsins Emanuels Swedenborg, sem uppi var á 18. öld, höfðu mikil áhrif á líf hans og list. Upp frá því vann hann að táknrænum myndverkum með margslungnu táknmáli sem byggt var á guðspeki.


LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR Eiríksgata 3, 101 Reykjavík Sími: 551 3797 Netfang: lej@lej.is Veffang: lej.is

OPNUNARTÍMI Opið alla daga kl. 12.00–17.00 nema mánudaga Upplýsingar um leiðsagnir og móttöku hópa í símum 557 3797 og 89 8 3913


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
lej by ferdalag - Issuu