ÁRSSKÝRSLA LISTASAFNS REYKJANESBÆJAR
2020
Listasafn Reykjanesbæjar Ársskýrsla 2020 © Listasafn Reykjanesbæjar Ljósmyndir Dagur Jóhannesson og Vigfús Birgisson Ljósmynd á kápu Vigfús Birgisson Texti Helga Þórsdóttir Útlit Björg Vilhjálmsdóttir Lestur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
EFNISYFIRLIT EFNISYFIRLIT . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
4.3 BÍÓSALUR DUUSHÚSA . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
1. FORSAGA OG HLUTVERK . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4
4.3.1 Sýning Elvu Hreiðarsdóttur. Grafíkverk. . . . . . . . . . . . . . . . . . .20
2. SAFNKOSTUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4
4.3.2 Úr Safneign, Sýningastjóri: Inga Þórey Jónsdóttir. . . . . . . . . . . . . 20
Söfnunarstefna Listasafns Reykjanesbæjar . . . . . . . . . . . . 4
4.4 STOFAN Í DUUS SAFNHÚSUM . . . . . . . . . . . . . . . 20
SAFNAUKI 2020 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
4.4.1 Lífangar, Arnbjörg Drífa Káradóttir. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .22
Listamaður: Björg Þorsteinsdóttir . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
4.4.2 Gerðið, Steingrímur Eyfjörð. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .22
Listamaður: Daði Guðbjörnsson . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
4.5 LISTAHÁTÍÐ BARNA Í REYKJANESBÆ, 2020. . . . . . . . . 22
3. ÚTGEFIÐ EFNI HJÁ LISTASAFNI REYKJANESBÆJAR ÁRIÐ 2020 14
5. ÚTGÁFA, MIÐLUN OG RANNSÓKNIR . . . . . . . . . . . . . . 22
3.1 Samtöl við listheiminn: . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
5.1 Samfélagsmiðlar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22
4. SÝNINGAHALD . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
5.1.1 VEFUR: REYKJANESBAER.IS/LISTASAFN . . . . . . . . . . . . . . . .22
4.1 SÝNINGARSTEFNA . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
5.1.2 LISTASAFN REYKJANESBÆJAR Á FACEBOOK . . . . . . . . . . . . .24
4.2 SÝNINGAR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
5.1.3 INSTAGRAM OG AÐRIR SAMFÉLAGSMIÐLAR . . . . . . . . . . . . . 26
4.2.1 Sýningar í Listasal og Bátasal . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .15
5.2 PRENTUN . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26
4.2.1.1 Ágústmyndir September-manna . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .15
5.3 LEIÐSAGNIR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 26
4.2.1.2 Sögur úr Safnasafni . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .15
5.4 HEIMILDAÖFLUN . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 27
4.2.1.3 Innskot. Ljóðræn tilviljun . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .16
6. HÚSNÆÐI OG REKSTUR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 27
4.2.1.4 Af hug og hjarta . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .16
6.1 HÚSNÆÐI OG OPNUNARTÍMI . . . . . . . . . . . . . . . . 27
4.2.1.5 Á sjó . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17
6.2 STARFSFÓLK LISTASAFNS REYKJANESBÆJAR . . . . . . . 27
4.2.1.6 Áfallalandslag, Landscapes of Trauma: a Reflection on Wonder . . . . . 17
6.3 GESTAFJÖLDI . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 28
4.2.1.7 Gjöf Daða . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17
REKSTRARUPPGJÖR . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 29
4.2.1.8 List 365 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .20
7. LOKAORÐ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30
1. FORSAGA OG HLUTVERK Listasafn Reykjanesbæjar varð 17 ára árið 2020. Safnið hóf formlega starfsemi í apríl 2003 þegar opnaður var góður sýningarsalur í Duus Safnahúsum sérstaklega ætlaður Listasafninu. Þá var líka unnin stofnskrá, starfsfólk ráðið og safnið fékk sjálfstæðan fjárhag. Listasafn Reykjanesbæjar var þar með orðin sjálfstæð stofnun í bæjarfélaginu og eitt af þremur söfnum bæjarins, en hin söfnin eru Bókasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar. Listasafn Reykjanesbæjar hafði þó verið til sem hugmynd, allt frá sameiningu sveitarfélaganna Njarðvíkur, Hafnahrepps og Keflavíkur árið 1994. Á þeim tíma var þó varla hægt að tala um eiginlegt listasafn heldur aðeins utanumhald á listaverkaeign bæjarins. Listasafn Reykjanesbæjar er eina listasafnið á Suðurnesjum og skipar því stórt hlutverk í menningarlífi svæðisins. Megin hlutverk Listasafnsins er að; standa fyrir öflugu framsæknu sýningarstarfi sem dregur fólk frá nágrannasveitarfélögum til Reykjanesbæjar, varðveita listaverk Reykjanesbæjar, safna nýjum verkum samkvæmt söfnunarstefnu, skrá verkin og rannsaka sögu þeirra, að miðla þekkingu um safnkostinn til heimamanna og annarra eftir bestu getu. Ný stofnskrá var samþykkt í menningarráði Reykjanesbæjar 14. september 2010 og var svo endurskoðuð í nóvember
4 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
2013. Listasafn Reykjanesbæjar sótti um formlega gildingu til menntamálaráðuneytisins í nóvember 2013 samkvæmt nýjum safnalögum og hlaut gildingu í febrúar 2014. Listasafn Reykjanesbæjar vinnur því samkvæmt safnalögum og sinnir þeim verkefnum sem slíkri stofnun er ætlað. Á árinu 2020 var ráðinn nýr safnstjóri, Helga Þórsdóttir, sem er með skrifstofu í Ramma á sama stað og safnageymslur Listasafns Reykjanesbæjar eru staðsettar.
2. SAFNKOSTUR Safnið á verk úr öllum helstu flokkum myndlistar, bæði inniog útiverk og er safneignin mjög fjölbreytt. Virk og markviss söfnun, þ.e. söfnun eftir söfnunarstefnu hefur verið viðhöfð frá og með árinu 2004 og ávallt verið tekið mið af því fjár magni sem hverju sinni er úthlutað til listaverkakaupa. Á árinu 2020, var ekki fjármagn hjá Listasafni Reykjanesbæjar til að kaupa myndlistarverk fyrir safnkost safnsins og ekki er fyrirsjáanlegt að svo verði heldur á árinu 2021. Hafa ber í huga að söfnun samkvæmt innkaupastefnu er eitt af lögbundnu hlutverkum viðurkenndra safna, þannig verða eigendur safnsins að hugsa til þessa þáttar í safnastarfinu á komandi árum.
2.1 SÖFNUNARSTEFNA Söfnunarstefnan sem unnið er eftir var endurskoðuð og samþykkt í nóvember 2010. Samkvæmt henni er m.a. lögð sérstök áhersla á að eignast verk eftir listamenn af Suðurnesjum. Söfnunarstefna Listasafns Reykjanesbæjar 1. Stefnt skal að því að listaverkaeign safnsins gefi góða mynd af verkum eftir listamenn Suðurnesja frá öllum tímum. 2. Stefnt skal að því að listaverkaeign safnsins gefi góða mynd af samtímalist á landinu öllu. 3. Safnið skal hvetja unga listamenn af Suðurnesjum til dáða með kaupum á verkum þeirra eins og hægt er miðað við fjárframlög hverju sinni. 4. Stefnt skal sérstaklega að söfnun verka eftir börn og unglinga úr Reykjanesbæ og ætlunin að koma upp góðu yfirliti yfir listiðkun þeirra. 5. Forstöðumaður tekur ákvarðanir um gjafir sem safninu eru boðnar og metur hvort taka eigi við þeim. Það er ekki heimilt að taka við gjöfum sem kvaðir fylgja. Gjöf skal fylgja gjafabréf undirritað af gefanda. 6. Listasafn Reykjanesbæjar sér um innkaup listaverka fyrir hönd bæjarins miðað við fjárframlög hverju sinni. 7. Gjafir og fjárframlög til safnsins eru frádráttarbær til skatts, sbr. ákvæði laga um tekjuskatt og eignaskatt nr. 75/1985 með áorðnum breytingum.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 5
2.2 SAFNAUKI OG RANNSÓKNIR 2020 Listasafn Reykjanesbæjar tók við tveim stórum myndverka gjöfum á árinu 2020, eftir tvo vel metna myndlistarmenn. Verkin sem safnið tók við eru eftir þau Björgu Þorsteins dóttur (1940–2019) og Daða Guðbjörnsson (f. 1954). Björg Þorsteinsdóttir lagði stund á teikningu, málun og grafík, allt frá sjöunda áratugnum til æviloka. Hún útskrif aðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1964, lærði við École Nationale Supérieure des Beaux Arts og grafík verkstæðið Atelier 17 í París árin 1971–1973. Björg hélt fjöl margar einkasýningar og var valin á samsýningar bæði hér á landi og erlendis. Hún sat í stjórn Íslenskrar grafíkur og Félagi íslenskra myndlistarmanna, í ráði Norrænu myndlista rmiðstöðvarinnar NKC í Finnlandi og í fulltrúaráði Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Björg var forstöðumaður Safns Ásgríms Jónssonar 1980–1984 og starfaði einnig sem kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík. Í maí 2020 fékk Listasafn Reykjanesbæjar rausnarlega gjöf úr dánarbúi Bjargar sem samanstendur af 105 myndverkum, þar af eru 7 krítarteikningar, 11 akrýlmálverk og 87 grafíkverk. Búið er að skrá verkin í menningarsögulegt gagnasafn Sarps sem hefur að geyma verk í eigu allra safna á Íslandi.
6 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Daði Guðbjörnsson hefur frá upphafi níunda áratugarins starfað nær eingöngu að listsköpun sinni með áherslu á málverkið og grafík. Hann lærði við Myndlistaskólann í Reykjavík 1972–1976, Nýlistadeild Myndlista- og handíða skóla Íslands 1976–1980 og stundaði nám við grafíkdeild Rijksakademie van beelende kunsten í Amsterdam 1983– 1984. Daði hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum bæði hér á landi og erlendis. Hann var formaður Félags íslenskra myndlistarmanna 1986–1990, í safnráði Listasafns Íslands 1987–1989 og hefur einnig unnið sem leiðbeinandi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1985–1989 og Myndlistaskólann í Reykjavík 1988–1997. Daði hefur stundað Sahajajóga og hugleiðslu frá árinu 2006. Þann 17. október 2020 opnaði Listasafn Reykjanesbæjar yfirlitssýningu á grafíkverkum Daða frá árunum 1978–2020. Við þetta tilefni gaf listamaðurinn safninu formlega að gjöf rúmlega 300 grafíkverk, en af þeim voru 244 verk á sýningunni. Listasafnið vinnur nú að því að skrá grafíkverk Daða í menningarsögulegt gagnasafn Sarps sem hefur að geyma verk í eigu allra safna á Íslandi. Þegar hafa um 75 myndverk af gjöf Daða verið skráð.
Á árinu 2020 var Helga Arnbjörg Pálsdóttir listfræðingur ráðin til starfa hjá Listasafni Reykjanesbæjar í gegnum vinnumarkaðsúrræði, til að sinna skráningum hjá safninu. Einnig fékk safnið styrk frá Safnasjóði árið 2020 og Upp byggingarsjóði árið 2021 til að sinna skráningum og mun Helga Arnbjörg því sinna skráningum fyrir listasafnið áfram sem verkefnaráðinn starfsmaður þegar vinnumarkaðs úrræðinu sleppir. 169 nýskráningar voru skráðar í Sarp hjá Listasafni Reykjanes bæjar árið 2020 og fóru skráningar á tímabilinu frá 1166 upp í 1335. Allt sem skráð var árið 2020 eru ítarskráningar, þar sem rannsókn fór fram vegna hverrar skráningar fyrir sig. Rannsókn vegna skráningar felur m.a. í sér að skráningaraðili finnur út eigandasögu, hvar verkið hefur verið sýnt og í hvaða samhengi það var, umfjallanir um verkið, ártal o.s.frv. Staða skráninga í marsmánuði 2021 eru 1372. Starfsmenn Listasafns Reykjanesbæjar áætla að eftir sé að skrá um 150 myndverk eftir Daða Guðbjörnsson.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 7
SAFNAUKI 2020 Listamaður: Björg Þorsteinsdóttir Fjöldi
LRN
Aldur
Grein
Verkheiti
27
1193
1974
Grafík
Hnútar
1
1167
1990
Krítarteikningar
Bláfjöll
28
1194
1972
Grafík
Hjartsláttur I
2
1168
1990
Krítarteikningar
Miðaldaminning I
29
1195
1972
Grafík
Hjartsláttur II
3
1169
1990
Krítarteikningar
Förunautar
30
1196
1979
Ætingar
Genesis VIII
4
1170
1990
Krítarteikningar
Miðaldaminning II
31
1197
1979
Grafík
Kapphlaup
5
1171
1992
Krítarteikningar
Án titils
32
1198
1979
Grafík
Bústaðir
6
1172
1988
Krítarteikningar
Fortíðarbrot II
33
1199
1979
Akvatintur, ætingar
7
1173
1988
Krítarteikningar
Án titils
34
1200
1975
Ætingar
35
1201
1972
Grafík
Úr ríki náttúrunnar II
Margt er smátt í vettlingi manns
8
1174
2007
Akrýlmálverk
Án titils
9
1175
2011–2012
Akrýlmálverk
Blátt stef
36
1202
1972
Grafík
Bottle - scape
10
1176
1987
Akrýlmálverk
Særím
37
1203
1972
Grafík
Bottle globe
11
1177
1987
Akrýlmálverk
Húm
38
1204
1972
Grafík
Bottle - heap
12
1178
1993
Akrýlmálverk
Blátt tungl I
39
1205
1973
Grafík
Bottle cut
13
1179
1992–1993
Akrýlmálverk
Hvítasunna
40
1206
1971
Grafík
Ascencion (GR)
14
1180
2008
Akrýlmálverk
Án titils
41
1207
1974–1975
Akvatintur, ætingar
Tvenna II
Bottle Still Life
15
1181
1973–1974
Akrýlmálverk
Án titils
42
1208
1974–1975
Akvatintur, ætingar
Tvenna I
16
1182
1974
Akrýlmálverk
Delta III
43
1209
1975
Grafík
Gáta III
44
1210
1975
Grafík
Gáta IV
17
1183
1974
Akrýlmálverk
Delta II
18
1184
1974
Akrýlmálverk
Delta I
45
1211
1974
Grafík
Nafnlaus
19
1185
1971
Akvatintur, ætingar
Martröð
46
1212
1974
Grafík
Omega
20
1186
1971
Akvatintur, ætingar
Áfram
47
1213
1974
Grafík
Skjóða
21
1187
1971
Akvatintur, ætingar
Þvolmynd
48
1214
1974–1975
Grafík
Fingramál
22
1188
1972
Grafík
Andstæðar sveiflur
49
1215
1972
Grafík
Bottle - bottle
23
1189
1972
Grafík
Andstæðar sveiflur
50
1216
1974
Ætingar
Hringrás II
24
1190
1971
Ætingar
Heimilistæki
51
1217
1986
Grafík
Fúga
25
1191
1974
Grafík
Gáta I
52
1218
1981
Grafík
Orð frá P.W
26
1192
1974
Grafík
Án titils
53
1219
1981
Ætingar
Gamalt bréf II
8 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
54
1220
1981
Ætingar
Án titils
81
1247
1977–1978
Ætingar
Svefnborg I
55
1221
1981
Grafík
Langlínur I
82
1248
1977–1978
Ætingar
Svefnborg II
56
1222
1981
Grafík
Langlínur II
83
1249
1976
Ætingar
Duett
57
1223
1983
Akvatintur, ætingar
Snertifletir IX
84
1250
1974
Ætingar
Hringrás I
58
1224
1983
Akvatintur, ætingar
Snertifletir VI
85
1251
1976
Ætingar
Hringrás III
59
1225
1982
Akvatintur, ætingar
Snertifletir IV
86
1252
1976
Grafík
Solo III
60
1226
1982
Akvatintur, ætingar
Snertifletir VI
87
1253
1972
Grafík
Án titils
61
1227
1983
Akvatintur, ætingar
Snertifletir III
88
1254
1969
Akvatintur, ætingar
Leikur að beinum I
62
1228
1983
Akvatintur, ætingar
Snertifletir VII
89
1255
1971
Akvatintur, ætingar
Inside
63
1229
1982
Akvatintur, ætingar
Snertifletir I
90
1256
1972
Grafík
Andstæðar sveiflur
64
1230
1986
Ætingar
Óskasteinn I
91
1257
1986
Grafík
Úr steinaríkinu II
65
1231
1986
Ætingar
Óskasteinn III
92
1258
1983
Grafík
Kjarnar
66
1232
1986
Ætingar
Óskasteinn II
93
1259
1970
Grafík
„Ind“
67
1233
1982
Grafík
Kjarni
94
1260
1972
Grafík
Niður
68
1234
1996
Ætingar
Gáta I
95
1261
1970
Grafík
One - being
69
1235
1996
Ætingar
Gáta II
96
1262
1970
Akvatintur, ætingar
Metro
70
1236
1996
Ætingar
Gáta III
97
1263
1970
Akvatintur, ætingar
Völundarhús
71
1237
1996
Ætingar
Gáta IV
98
1264
1970
Akvatintur, ætingar
Menningarleiðslur
72
1238
1986
Ætingar
Í ljósaskiptunum III
99
1265
1969
Akvatintur, ætingar
Út í geiminn (GR)
73
1239
1976
Akvatintur, ætingar
Quartett III
100
1266
1969
Akvatintur, ætingar
Leikur að beinum II
74
1240
1976
Akvatintur, ætingar
Quartett II
101
1267
1969
Akvatintur, ætingar
Endurskin
75
1241
1976
Akvatintur, ætingar
Quartett I
102
1268
1969
Akvatintur, ætingar
Hvítur á leik
76
1242
1976
Grafík
Solo I
103
1269
1969
Akvatintur, ætingar
Mengi
77
1243
1976
Grafík
Chorus
104
1270
1969
Akvatintur, ætingar
Úr djúpinu I
78
1244
1977
Ætingar
Genesis V
105
1271
1969
Ætingar
Klofning
79
1245
1978
Ætingar
Genesis VII
106
1272
1994
Ætingar
Venus á hvalveiðum
80
1246
1976–1977
Ætingar
Genesis I
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 9
Listamaður: Daði Guðbjörnsson 107
1273
1983
Steinþrykk
Án titils
137
1303
1978
Dúkristur
Vegur
108
1274
1990
Ætingar
Veiðireifur
138
1304
1978
Dúkristur
Póstkort
109
1275
1984
Offsetþrykk
Tveirsauðir
139
1305
1983
Steinþrykk
Staða (3)
110
1276
1984
Steinþrykk
Kven painter
140
1306
1985
Steinþrykk
Staða (5)
111
1277
1990
Ætingar
Morgunroði
141
1307
1989
Ætingar
Erðanú púki
112
1278
1983–1986
Steinþrykk, Ætingar
Ást og stærðfræði
142
1308
1987
Ætingar
Tvísöngur
113
1279
1983
Tréristur
Stjörnu
143
1309
1987
Þurrnálarmyndir
Appelsínudýr
114
1280
1984
Silkiþrykk
He
144
1310
1993
Ætingar
Veiði tungl
115
1281
1985
Dúkristur
Nafnlaus
145
1311
1992
Ætingar
Lengra burt
116
1282
1997
Ætingar
Gullsey
146
1312
1982
Ætingar
Enda te
117
1283
1985
Steinþrykk
Wish
147
1313
1979
Glerrista
Brotin spor
118
1284
1988
Einþrykk
Selstúlka
148
1314
1979
Glerrista
Brotin spor
119
1285
1985
Silkiþrykk
She
149
1315
1979
Glerrista
Brotin spor
120
1286
1984
Offsetþrykk
Vor
150
1316
1979
Glerrista
Brotin spor
121
1287
1985
Dúkristur
Eiginleikar
151
1317
1989
Ætingar
Huxað til veiða
122
1288
1985
Steinþrykk
Art monster
152
1318
2014
Ætingar
Bláir mávar
123
1289
1987
Einþrykk
Ástar drykkurinn
153
1319
1990
Tréskurður
Filmstjarna
124
1290
1983
Steinþrykk
Heart monster
154
1320
1997
Ætingar
Sól í seglum
125
1291
2006
Ætingar
Lífsins tré
155
1321
1991
Ætingar
Ra-hami
126
1292
1996
Steinþrykk
Sagan er alltaf söm
156
1322
1992
Ætingar
Brotsjónum gegn
127
1293
2006
Ætingar
Saman með blómið
157
1323
1986
Steinþrykk
Um sjóferð þá
128
1294
2006
Ætingar
Stjörnuveiðar
158
1324
1983
Steinþrykk
Staða (6)
129
1295
2002
Ætingar
Heima í heiðardalnum
159
1325
1989
Steinþrykk
Lífsvagn listvagn
130
1296
2007
Ætingar
Stefnumót í landslaginu
160
1326
1992
Ætingar
Ein með öllu
131
1297
2002
Ætingar
Draumabíllinn
161
1327
1990
Ætingar
Ástir samlyndra
132
1298
1986
Steinþrykk
Skógarhljóð
162
1328
1991
Ætingar
Veiðibrella
133
1299
1983
Steinþrykk
Blauwe vogels
163
1329
1996
Ætingar
Eldur er bestur
134
1300
1983
Steinþrykk
Love hate
164
1330
1992
Ætingar
Bók og ormur
135
1301
1985
Steinþrykk
Ideologie
165
1331
1991
Ætingar
Dags í draumi
136
1302
1978
Dúkristur
Ör hjarta
166
1332
1998
Ætingar
Afla sæla
10 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
167
1333
1978
Þurrnálarmyndir
?
168
1334
1984
Steinþrykk
Formstúdía
169
1335
1979
Dúkristur
Dúkahnífur í dúk
170
1336
2001
Ætingar
Nýtt ferðalag
171
1337
1993
Ætingar
Paradísarfugl í París
172
1338
1990
Ætingar
Verðtrygging
173
1339
1991
Ætingar
Bláir indjánar
174
1340
2006
Ætingar
Góðir gæjar
175
1341
1997
Ætingar
Veiði stjórnandi
176
1342
1987
Ætingar
Á og í sjó
177
1343
1988
Ætingar
Sól í heimsókn
178
1344
1989
Þurrnálarmyndir
Rigningardagur
179
1345
1991
Ætingar
Ást í könnu
180
1346
1993
Ætingar
Gullfótur
181
1347
2018
Ætingar
Hjörtun í húsinu
182
1348
2017
Ætingar
Ævintýrin í skóginum
183
1349
1982
Ætingar
Tár
184
1350
1995
Ætingar
Hamingju hamar
185
1351
1992
Ætingar
Veiðibrella
186
1352
1984
Þurrnálarmyndir
Tví
187
1353
1984
Steinþrykk
Pardus samband
188
1354
1983
Steinþrykk
Gangari
189
1355
1995
Ætingar
Ástarhreiður
190
1356
1983
Ætingar
Á hjóli
191
1357
1983
Ætingar
Veiðar
192
1358
1983
Ætingar
Intellectual
Gleði, peningar, fegurð
193
1359
1983
Ætingar
194
1360
1983
Ætingar
Spa
195
1361
2020
Ætingar
Kisi köttur
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 11
12 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Daði Guðbjörnsson, frá einkasýningu hans hjá Listasafni Reykjanesbæjar.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 13
3. ÚTGEFIÐ EFNI HJÁ LISTASAFNI REYKJANESBÆJAR ÁRIÐ 2020 1. 2. 3. 4.
Ágústmyndir September-manna, prentuð sýningarskrá. Safnasafn, prentuð sýningarskrá. Gjöf Daða, prentuð sýningarskrá. Geirfuglinn, samstarf við Listasafn ASÍ. Vinnustofa barna og útsetning á Facebook, þar sem höfundur Geirfuglsins, Gísli Pálsson talar um eigið höfundarverk.
3.1 Samtöl við listheiminn: 1. Aðalsteinn Ingólfsson 2. Áslaug Thorlacius 3. Loji Höskuldsson 4. Listahátíð barna fyrri hluti 5. Listahátíð barna seinni hluti 6. Haraldur Karlsson 7. Margrét Elísabet Ólafsdóttir 8. Steingrímur Eyfjörð 9. Ósk Vilhjálmsdóttir 10. Halldór Ásgeirsson 11. Gjörningaklúbburinn-Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir 12. Daði Guðbjörnsson 13. Tim Junge og Lind Völundardóttir
4. SÝNINGAHALD 4.1 SÝNINGARSTEFNA (Samþykkt 2. nóvember 2010) 1.gr. Stefnt skal að því að listaverkaeign safnsins gefi góða mynd af verkum eftir listamenn Suðurnesja frá öllum tímum. 2.gr. Stefnt skal að því að listaverkaeign safnsins gefi góða mynd af samtímalist á landinu öllu. 3.gr. Safnið skal hvetja unga listamenn af Suðurnesjum til
14 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
dáða með kaupum á verkum þeirra eins og hægt er miðað við fjárframlög hverju sinni. 4.gr. Stefnt skal sérstaklega að söfnun verka eftir börn og unglinga úr Reykjanesbæ og ætlunin að koma upp góðu yfirliti yfir listiðkun þeirra. 5.gr. Forstöðumaður tekur ákvarðanir um gjafir sem safninu eru boðnar og metur hvort taka eigi við þeim. Það er ekki heimilt að taka við gjöfum sem kvaðir fylgja. Gjöf skal fylgja gjafabréf undirritað af gefanda. 6.gr. Listasafn Reykjanesbæjar sér um innkaup listaverka fyrir hönd bæjarins miðað við fjárframlög hverju sinni. 7.gr. Gjafir og fjárframlög til safnsins eru frádráttarbær til skatts, sbr. ákvæði laga um tekjuskatt og eignaskatt nr. 75/1985 með áorðnum breytingum. 4.2 SÝNINGAR Sýningahald hefur allt frá upphafi verið viðamikill liður í starfsemi Listasafns Reykjanesbæjar. Safnið hefur komið beint eða óbeint að fjölda sýninga sem haldnar hafa verið í bæjarfélaginu m.a. á Ljósanótt auk sýninganna sem safnið hefur haft forgöngu um í sýningarsölum sínum í Duus Safnahúsum. Listasafnið hefur tvo fasta sýningarsali í Duus Safnahúsum en samkomulag náðist um að Bátasalurinn yrði nýr sýningarsalur Listasafnsins til viðbótar við Listasal, frá og með ágúst 2020. Við þær breytingar kostaði Listasafnið: nýja veggklæðningu á Bátasalinn, ásamt því að mála gaflvegg upp að mæni, gerður var milliveggur milli afgreiðslu og sýningasalar, farið var yfir ljós í lofti af fagmönnum þar sem ónýt ljós voru tekin niður og ný lýsing sett upp til að auka möguleika í sýningarhaldi. Ljóst er þó að skipta þarf alveg út lýsingu bæði í Bátasal og Listasal. Safnið hefur fengið skýrslu með úttekt þar sem áætlun fagmanna fyrir aðgerðinni er um kr.1.800.000. Forstöðumaður safnsins hefur sótt um styrk hjá Safnasjóði til verksins og kemur svar við umsókn safnsins væntanlega eftir páska 2021.
12 sýningar voru settar upp hjá Listasafni Reykjanesbæjar 2020 • nóvember 2019 – 12. janúar 2020. För – Blönduð tækni og einþrykk eftir Elvu Hreiðarsdóttur. Bíósalur. • nóvember 2019 - 12. janúar 2020. Ágústmyndir September-manna, Listasalur. Einkasafn Braga Guðlaugssonar. • 7. febrúar - 19. apríl 2020. Lífangar, Stofan. Leir og postulín eftir Arnbjörgu Drífu Káradóttur. • 7. febrúar - 19. apríl 2020. Sögur úr safnasafni, Listasalur. Verk frá Safnasafninu á Svalbarðsströnd en safnið fagnaði 25 ára afmæli sínu með ýmsum hætti. Listamennirnir sem áttu verk á sýningunni eru Hálfdan Ármann Björnsson, Jón Eyþór Guðmundsson, Sæmundur Valdimarsson og Sigurður Einarsson. • 4.- 29. maí 2020. Innskot, Listasalur. Samsýning, listamenn: Loji Höskuldsson og Áslaug Thorlacius. • 5. júní - 3. ágúst 2020. Af hug og hjarta, Listasalur. Tilraunakennd vídeóverk sem byggðu á segulómmyndum af heila. Listamaður: Haraldur Karlsson. • 5. júní - 5. ágúst 2020. Gerðið, Stofan. Hlutirnir og sviðið voru túlkun Steingríms Eyfjörð á lýsingum huldumanns á hlutum sem tengjast dýrahaldi í veraldarvídd hulduheima. Listamaður: Steingrímur Eyfjörð. • 8.-17. ágúst 2020. Á SJÓ - POP-UP sýning. Listasalur. Þemað var sjómennska, úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar. • 3. September - 12. október 2020. Áfallalandslag, Listasalur og Bátasalur. Sýning innblásin af grein sem skrifuð er af Sigurjóni Baldri Hafsteinssyni og Arnari Árnasyni, Landscapes of Trauma: a Reflection on Wonder. Listamenn sýningarinnar voru Ósk Vilhjálmsdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Halldór Ásgeirsson og Gjörninga
klúbburinn þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir. • Október 2020 – febrúar 2021. Gjöf Daða, Listasalur. Gjöf til Listasafns Reykjanesbæjar frá Daða Guðbjörnssyni – á þriðja hundrað grafíkverk sem eru frá árunum 1978-2020. • 5.-21. desember 2020. List í 365 daga, Bátasalur, á vegum Listasafns Reykjanesbæjar. Verk eftir myndlistar menn, hönnuði, skáld, ljósmyndara, kvikmyndagerðar menn, svo eitthvað sé nefnt. 4.2.1 Sýningar í Listasal og Bátasal Sýningar Listasafns Reykjanesbæjar í Listasal og Bátasal voru 8 árið 2020. 4.2.1.1 Ágústmyndir September-manna Þann 14. nóvember var opnuð sýning á verkum úr einkasafni ástríðusafnarans Braga Guðlaugssonar. Um langt árabil hefur hann verið fastagestur á öllum myndlistarsýningum á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem hann sækir heim myndlistarmenn til að kaupa af þeim myndir, skiptist á myndum við aðra safnara, verslar að auki við uppboðshús heima og erlendis. Eins og títt er um ástríðusafnara lætur Bragi tilviljanir og tilfinningar ráða för. Um leið er hann knúinn áfram af ákveðinni köllun, nefnilega að eignast bestu útgáfuna af hverjum listamanni sem hann hrífst af. Kaupi hann t.d. uppstillingu eftir Þorvald Skúlason, vill hann vera handviss um að eignast þá bestu sem völ er á. Til að öðlast þá fullvissu leggst hann iðulega í umfangsmikla eftir grennslan. Og verður margs fróðari fyrir vikið. Ástin fer ekki í manngreinarálit. Því hafa ástríðusafnarar eins og Bragi tilhneigingu til að vera býsna víðtækir í söfnun sinni. Í fórum hans er því að finna mörg ágæt verk frá ýmsum tímum.
Heildstæðast er þó safn hans af verkum eftir íslenska lista menn á tímabilinu 1930-1960, þegar myndlistin í landinu stóð frammi fyrir meiri breytingum en nokkru sinni fyrr. Sérstaklega er lærdómsríkt safnið sem hann hefur komið sér upp af myndum og formyndum eftir þau Karl Kvaran, Guðmundu Andrésdóttur og Kristján Davíðsson. Listasafnið fékk að velja úr þessu safni nokkrar myndir, aðallega olíu málverk, eftir þrettán listamenn sem endurspegla mikið umbrotaskeið íslenskrar myndlistar, þegar umfjöllun um veruleikann er smátt og smátt að víkja fyrir hugmyndinni um listaverkið sem sjálfstæðan veruleika. Þarna er aðallega um að ræða verkin sem kynslóð eftirstríðsáranna gerir í aðdrag anda myndlistarbyltingarinnar sem kennd er við September sýningarnar 1947-52, sem sagt „Ágústmyndir Septembermanna“. Sýningarstjóri var Aðalsteinn Ingólfsson. 4.2.1.2 Sögur úr Safnasafni Menn eru ef til vill ekki einhuga um skilgreiningar á list sköpun ýmiss konar sérlunda einfara og alþýðulistamanna sem undanfarna áratugi hafa reynt á þanþol myndlistarinnar, hér á Íslandi sem annnars staðar. Hins vegar er engum vafa undirorpið að með starfsemi sinni í þágu þessarar fjölbreyttu en sérstöku listtjáningar hafa þau hjónin Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir lyft hverju grettistakinu á fætur öðru. Á þessu ári heldur hugarfóstur þeirra, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, upp á 25 ára afmæli sitt með ýmsum hætti. Listasafn Reykjaness, sem ítrekað hefur notið vinsamlegrar fyrirgreiðslu Safnasafnsins á undanförnum árum, ákvað að taka forskot á þessi hátíðarhöld með því að efna til sýningar á fjórum listamönnum úr ranni þess. Verk þeirra hafa verið snar þáttur í starfsemi Safnasafnsins hið nyrðra á undanförnum árum, en hafa ekki verið ýkja áberandi hér syðra.
Með því að leggja rúmgóðan sal Listasafns Reykjaness undir verk fjögurra listamanna úr Safnasafni: Hálfdans Ármanns Björnssonar, Jóns Eyþórs Guðmundssonar, Sigurðar Einarssonar og Sæmundar Valdimarssonar, gafst einnig kjörið tækifæri til að halda á lofti viðhorfi sem hefur verið nokkuð einkennandi fyrir hugmyndafræði þeirra Níelsar og Magnhildar, nefnilega að einungis með því að draga saman og vinna með umtalsvert magn verka eftir sérhvern listamann, geta listasöfn og listáhugafólk öðlast viðunandi skilning á eðlisþáttum þeirra. Á sýningu Listasafns Reykjaness eru myndaðar „eyjar“ með verkum eftir þrjá afkomendur fornrar tréskurðarhefðar, Hálfdans, Jóns Eyþórs og Sæmundar, sem allir leita sér fanga í íslensku birki eða trjáviði af Íslandsströndum. Í verkum þeirra renna saman fjörlegir hugarheimar þeirra og íslensk alþýðumenning, frásagnir af óvæginni lífsbaráttu almúga fólks og tilraunum þess til að gera sér lífið bærilegra með frásögnum af „kynlegum kvistum“ og íbúum í álfabyggð. Málverk Sigurðar Einarssonar umlykja þessar veraldarsýnir þrívíddarlistamannanna, uppfull með síkvikt samspil mann sækinnar náttúru og náttúrutengds mannlífs, ekki ósvipað því sem við sjáum í málverkum Jóhannesar Kjarvals. Listasafn Reykjaness vill þakka Safnasafninu og öllum aðstand endum þess fyrir snurðulaust samstarf, nú sem endranær, sömuleiðis öllum þeim sem komu að uppsetningu sýningar innar hér syðra. Sýningarstjóri var Aðalsteinn Ingólfsson.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 15
4.2.1.3 Innskot. Ljóðræn tilviljun Ég átti erindi við konu í úthverfi Innri - Njarðvík, útvarpið var stillt á RÚV 1 (eins og alltaf, í mínum bíl er bannað að skipta um rás) það var ekki tilviljun. Á meðan ég villtist um úthverfið, sem ekki heldur var tilviljun (ég villist alltaf í úthverfum) tilkynnti þáttarstjórnandi að í þættinum yrði rætt við vinkonu mína, Margréti Elísabetu Ólafsdóttur, doktor í list- og fagurfræði og nokkra listamenn um hvernig þeir höndla „ástandið“ á tímum Kóróna vírusins.
sem gengið er eftir. Vegurinn er ekki aðeins frábrugðinn stígnum að því leyti að ekið er eftir honum, heldur er hann einfaldlega lína sem liggur á milli tveggja punkta. Vegurinn hefur enga merkingu í sjálfu sér; aðeins þeir punktar sem hann tengir saman. Stígurinn er lofgjörð rýmisins. Hver smá spotti af stígnum er hlaðinn eigin merkingu og býður okkur að staldra við. Vegurinn gerir sigri hrósandi sem minnst úr gildi vegalengdanna, sem nú eru aðeins taldar manninum til trafala, tímasóun.“
Ég hlusta áfram, því ég vil heyra hvað Margrét hefur að segja, en fyrst er rætt við listamennina, því hlustaði ég á það samtal fyrir tilviljun. Logi Höskuldsson (Loji) er fyrstur á mælendaskrá, hann fer að ræða um ný saumaspor sem hann hefur loksins tíma til að prófa og hvernig hann saknar þess að hitta vini sína í sveittum kjallara í þeim tilgangi að fá útrás í hljóðsköpun saman.
Ég held áfram að villast um Innri-Njarðvík, en geri það nú með meðvituðum hætti þar sem ég veit ekki lengur hvar punktur B er, því ég er farin af veginum komin inn á stíginn. Hugurinn reikar, er stilltur á rás eilífðarklukkunnar. Upp í huga minn skýst önnur minning um mynd sem ég sá fyrir mörgum árum í Hafnarborg. Myndin er eftir Áslaugu Thorlacius, Augnablik í eldhúsi, allt í einu er myndheimur Áslaugar og Loga, brostinn í vals við eilífðarklukkuna, sam hæfing þeirra er náttúruleg, hnökralaus.
Á meðan ég hlusta á Loga fer hugur minn að reika um myndheim hans, upp koma myndskot þar sem fífur sveigjast í vindi innan vel afgirts svæðis, einkasvæði helgað einstaklingi. Vasi Eyborgar Guðmundsdóttur, vekur minningar um heimili ömmu minnar. Hið heilaga heimili, öryggi, jafnvel hamingja. Ég heyri í eilífðarklukku Halldórs Laxness, þar sem tíminn er stemmning, ævarandi augnablik. Skyndilega er ég hætt að keyra veg, mér finnst ég frekar feta stíg undir frásögn Loga. Milan Kundera útskýrir muninn á stíg og vegi í bók sinni Ódauðleikanum, sem kom út á íslensku árið 1990 í þýðingu Friðriks Rafnssonar, þar segir hann: „Stígur: landamæra
16 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Bæði yrkja þau um eilífðarklukkuna, um persónulegt rými, um hlutlæga tjáningu mannfólksins, um stemmningu tilviljana, um augnablik barnsins, um augnablik móður hlutverksins, um innri líðan mannverunnar. Hugur minn tekur upp vals Loga og Áslaugar, veit núna akkúrat hvar stígurinn endar og hvert útsýnið er þaðan. Innskotið á veginum leiddi til stígsins og birti mér útsýnið. Hlutverk innskotsins í hinu stóra samhengi tilverunnar.
Kundera fjallar nánar um hugmyndina um innskotið í bók sinni Ódauðleikanum: „Innskotið er mikilvægt hugtak í verki Aristótelesar, Um skáldskaparlistina, Aristóteles er lítt hrifinn af innskotinu. Innskotstilburðir eru að hans dómi allra atburða verstir (ef horft er út frá skáldskaparlistinni). Þar sem innskotið er ekki nauðsynleg afleiðing þess sem undan er gengið og hefur engar afleiðingar í för með sér, stendur utan við þá atburðarás sem sagan er.“ En innskotið getur verið sagan sjálf, svo tengt sem það er eilífðartímanum, hreyfing bolta, matur í ofni, blúnda á stól. Virkni þess smáa á líðan hverrar mannveru. Kundera gengur út frá forsendum Aristótelesar, en bætir síðan þessu við: „Ekkert innskot er fyrirfram dæmt til að vera innskot til eilífðarnóns, því hver atburður, jafnvel sá allra ómerkilegasti, býr yfir þeim möguleika að geta seinna orðið orsök annarra atburða, og breytast á þann hátt í sögu, ævintýri.“ Þannig eru möguleikar innskotsins óendanlegir, það gefur stígnum ófyrirséð rými sem breytir framgangi sögunnar. Helga Þórsdóttir safnstjóri var sýningarstjóri. 4.2.1.4 Af hug og hjarta Á sýningunni Af hug og hjarta er að finna tilraunarkennd vídeóverk eftir Harald Karlsson. Frá árinu 2014 hefur Haraldur verið að vinna verk í vídeó sem byggja á segulómmyndum af heila og hann kallar einfaldlega Heili (Brain). Vísindin vita ennþá lítið um heilann, en segulómmyndirnar eru hluti af vísindarrannsókn sem miðar að því að öðlast betri
þekkingu á starfsemi heilans og þroska hans. Í gegnum segulómmyndirnar hefur Haraldur haldið í sinn eigin listræna könnunarleiðangur um myndefnið þar sem hann nýtir sér myndvinnsluforrit til að ferðast um óþekkt svæði og teikna upp mynstur, brautir og efnahvörf. Nýverið áskotnuðust honum einnig segulómmyndir af hjarta sem hann notar á sama hátt og birtast í þessari sýningu með myndum af heilanum. Hluti af innsetningunni í Listasafni Reykjanesbæjar byggir einnig á óhlutbundnu myndefni sem fjallar um sama viðfangsefni en eru unnið beint í myndvinnsluforrit. Verkið er langtímaverkefni, gert í beinu framhaldi af Litla sólkerfinu (2000-2022). Sýningarstjóri: Margrét Elísabet Ólafsdóttir. 4.2.1.5 Á sjó Á sjó er pop-up sýning úr safneign listasafnsins og að þessu sinni er þemað sjómennskan, sem er tenging við sögu Suðurnesja og staðsetningu Duus Safnahúsa við sjóinn og smábátahöfnina. Listasafnið á stórt safn verka sem sýna sjómenn að störfum, báta í höfn og sjósett skip. Þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni eru: Áki Gränz, Ásta Árnadóttir, Eiríkur Smith, Eggert F. Guðmundsson, Finnur Jónsson, Jón Gunnarsson, Jón Stefánsson, Jónas Marteinn Guðmundsson, Kjartan Guðjónsson, Óskar Jónsson, Steinþór Marinó Gunnarsson og Sveinn Björnsson. Sýningarstjóri var Helga Arnbjörg Pálsdóttir.
4.2.1.6 Áfallalandslag, Landscapes of Trauma: a Reflection on Wonder Áfallalandslag var sýning sem áætlaði að tengja áhorfandann við atburðarás áfalla sem tengjast náttúruhamförum. Sýningin var innblásin af grein sem skrifuð er af Sigurjóni Baldri Hafsteinssyni og Arnari Árnasyni, Landscapes of Trauma: a Reflection on Wonder. Sigurjón Baldur og Arnar vitna í heimspekitrúfræðinginn Mary-Jane Rubenstein þar sem hún dregur saman línu á milli ensku orðanna wonder og wound. Enska orðið wonder þýðir meðal annars á íslensku; jarðteikn, undur, kraftaverk. Wound er þýtt á íslensku sem; særa, meiða, meiðsli, áverki. MaryJane segir bæði orðin standa fyrir truflun hversdagsleikans, atburður sem brýtur upp daglegt líf með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Rannsókn þeirra Sigurjóns og Arnars beinist að áfalli sem íbúar Vestmannaeyja urðu fyrir vegna náttúruhamfara árið 1973 og eftirmála þess í samtímanum. Grein þeirra Sigurjóns og Arnars, vakti athygli mína þar sem Reykjanesið virðist vera að vakna í jarðfræðilegum skilningi og hafa margir jarðskjálftar mælst hærra en 4 stig á Richter mælikvarða, frá seinni hluta ársins 2020. Þannig kviknaði hugmyndin að nota tungumál myndlistarinnar til að tjá áfall sem fylgir áverkum og undrum þess sem verður fyrir hamförum af völdum náttúruafla. Listamennirnir sem tóku þátt í haustsýningu Listasafns Reykjanesbæjar, Áfallalandslagi, eru allir þekktir fyrir að vinna með krafta náttúrunnar í eigin myndlistarsköpun. Sýningarstjóri var Helga Þórsdóttir safnstjóri.
4.2.1.7 Gjöf Daða Listasafn Reykjanesbæjar opnaði yfirlitssýningu á verkum Daða Guðbjörnssonar og á þessum tímamótum gaf hann safninu 400 grafíkverk sem eru frá árunum 1978-2020. Sýningarstjóri var Aðalsteinn Ingólfsson og skrifaði hann einnig í sýningarskrá meðal annars: Fyrir blöndu tilviljana og ásetnings hefur Listasafn Reykjaness á undanförnum misserum eignast umtalsvert magn merkilegra grafíkverka eftir íslenska og erlenda listamenn. Þegar við bætast hundruð grafíkverka eftir Daða Guðbjörnsson, er deginum ljósara að Listasafn Reykjaness er skyndilega orðið stærsta safn grafíklistaverka á landinu. Þessi staðreynd gerir safninu kleyft að marka sér sérstöðu í samfélagi íslenskra safnastofnana, kjósi aðstandendur þess að fara þá leið. Gjöf Daða Guðbjörnssonar hefur raunar sérstaka þýðingu í því samhengi. Því burtséð frá almennum listrænum sér kennum og myndlistarlegri þýðingu verka hans á breiðum grundvelli, sem fjallað hefur verið um annars staðar, (m.a. í sýningarskrá vegna einkasýningar listamannsins í Listasafni Reykjaness árið 2016), þá er gjöfin einstök sýnisbók grafík tækninnar. Nær öll afbrigði hennar er þar að finna, að undanskildri messótintu, sem listamaðurinn segist hafa leitt hjá sér vegna þess hve tímafrek hún er, auk þess sem hún „passaði ekki við þann áfangastað sem hann var að leita að“, að því listamaðurinn segir. Þarna eru tréristur, dúkristur, steinprent, koparætingar, sáldþrykk, einþrykk, offsetþrykk og blönduð verk, þar sem tvö eða þrjú prentafbrigði eru saman komin. Að ógleymdum handlituðum eða yfirprentuðum þrykkjum í öllum regnbogans litum.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 17
18 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 19
Uppáfinningarsemi listamannsins virðast engin takmörk sett. Er ljóst að þarna er að finna hráefni bæði til sýninga og margháttaðra kennslufræðilegra tilrauna með nemendum í myndmennt. Listasafn Reykjaness hefur einmitt lagt sig fram um að vinna með skólum í bæjarfélaginu. Sýningastjóri var Aðalsteinn Ingólfsson. 4.2.1.8 List 365 List 365, er verkefni sem sprettur úr hugarheimi grafíska hönnuðarins Tim Junge og listakonunnar Lind Völundardóttur. Tim er hollenskur og var einn af stofnendum listamanns rekins sýningarstaðar í The Hague, sem enn er í rekstri. List 365, er dagatal sem kynnir einn myndlistarmann á dag, árið 2020 átti að verða þriðja útgáfuár List 365. Því miður komst dagatalið ekki í prentun þetta árið sökum heimsfaraldurs. Hugsunin á bakvið verkefnið er að kynna fyrir almenningi þá breiðu flóru listamanna sem eru að störfum á Íslandi. Skapandi einstaklingum alls staðar að og í kring um Ísland er boðin þátttaka og má þannig segja að verkefnið sé mjög lýðræðislegt og sýnir þá breidd sem er til staðar innan hinna skapandi stétta á Íslandi.
20 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Þátttakendur voru: Aðalbjörg Þórðardóttir, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Anna Gunnlaugsdóttir, Arngunnur Ýr, Arnór Kári, Auður Vésteinsdóttir, Ásgeir Pétursson, Ásgeir Skúlason, Áslaug Jónsdóttir, Áslaug Thorlacius, Ásmundur Ásmundsson, Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir, Berglind Svavarsdóttir, Björg Atla, Borghildur Óskarsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Dagbjört Drífa Thorlacius, Dagný Guðmundsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Diðrik Jón Kristófersson (Nekron), Díana Júlíusdóttir, Drífa Líftóra Thoroddsen, Edda Þórey Kristfinnsson, Egill Prunner, Elín Anna Þórisdóttir, Elísabet Kristín Oddsdóttir, Erling T.V. Klingenberg, Erna Jónsdóttir, Finnur Arnar, Freyja Bergsveinsdóttir, Fríða Draumland, Gerður Guðmundsdóttir, Gígja Jónsdóttir, Greta S. Guðmundsdóttir, Gréta Hauks dóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, Guðlaug Geirsdóttir, Guðmundur Ingólfsson, Guðrún A. Tryggvadóttir, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Nielsen, Hadda Fjóla Reykdal, Hafdís Brandsdóttir, Hafdís Helgadóttir, Hafdís Pálína Ólafsdóttir, Halla Dögg Önnudóttir, Halldór Sturluson, Halldóra Emilsdóttir (Dóra Emils), Hanna Siv Bjarnardóttir, Hannes Lárusson, Harpa Einarsdóttir, Harpa Jónsdóttir, Heiðrún Sæmundsdóttir, Helga Nina Aas, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Helgi Gíslason, Hildur Björnsdóttir, Hlín Reykdal, Hlynur Hallsson, Hrafn Andrés Harðarson, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Hugo Poge, Hugrún Margrét Óladóttir, Hulda Vilhjálmsdóttir, Inga Björk Andrésdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Ingimar Ólafsson Waage, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, Ívar Valgarðsson, Jón Magnússon, Jón Sæmundur Auðarson,
Jóna Bergdal, Jónatan Grétarsson, Jónína Björg Helgadóttir, Katrín Matthíasdóttir, Kristinn Már Pálmason, Kristín Björk Kristjánsdóttir, Kristín Hálfdánardóttir, Kristín Pálmadóttir, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Kristín Tryggvadóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Laufey Johansen, Louise Harris, Maja Siska, María Kjartans, Mireya Samper, Norma E. Samúels dóttir, Ólöf Björg Björnsdóttir, Ólöf Oddgeirsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ragnhildur Jóhanns, Regina Magdalena Loftsdóttir, Sigríður Ásgeirs dóttir, Sigríður Ella Frímannsdóttir, Sigríður Rut Hreinsdóttir, Sigrún Sigvaldadóttir, Sigurborg Stefánsdóttir, Silvia Björg, Snorri Ásmundsson, Sóley Stefánsdóttir, Steingrímur Dúi Másson, Steingrímur Eyfjörð, Steinunn Lilja Draumland, Steinunn Þórarinsdóttir, Stephen Lárus Stephen, Sveinn Steinar Benediktsson, Tumi Magnússon, Viktoría Buzukina, Þorbjörg Þórðardóttir, Þóra Gunnarsdóttir, Þura – Þuríður Sigurðardóttir, Þuríður Elfa Jónsdóttir. Sýningarstjóri var Tim Junge. 4.3 BÍÓSALUR DUUSHÚSA 4.3.1 Sýning Elvu Hreiðarsdóttur. Grafíkverk. 4.3.2 Úr Safneign, Sýningastjóri: Inga Þórey Jónsdóttir. 4.4 STOFAN Í DUUS SAFNHÚSUM
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 21
4.4.1 Lífangar, Arnbjörg Drífa Káradóttir. Til sýnis voru verk unnin úr leir og postulíni, en innblástur þeirra er jörðin, jurtaríkið og dýraríkið. Form eru stílfærð út frá náttúrufyrirbærum og frjálslega túlkuð með blandaðri tækni. Tilraun er gerð til að ná fram hughrifum, ýmist á nær gætinn eða áleitinn hátt, frá hugarkyrrð til hræringa. Lífangi, listaverkið sem sýningin dregur nafn sitt af, er samsett úr nokkrum skúlptúrum og leitast við að laða fram augljósar tengingar við sjávar- og jurtaríki. Verkið er unnið úr postulíni og mun á leikandi hátt teygja anga sína út í rýmið. Arnbjörg Drífa hefur unnið með leir í yfir tuttugu ár, hún er menntaður keramískur hönnuður frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Drífa var í starfsnámi í Kaupmannahöfn hjá Christian Bruun 2016 – 2017. Hún er í hópi Raku-skvísanna sem koma reglulega saman og holu- og rakúbrenna leir og sýndu þær m.a. á Ljósanótt 2019. Drífa rekur eigin vinnu stofu í Reykjanesbæ, þar sem hún leggur megin áherslu á rennslu bæði með postulín og steinleir. Lífangar er fyrsta einkasýning Drífu. Sýningarstjóri var Inga Þórey Jónsdóttir. 4.4.2 Gerðið, Steingrímur Eyfjörð. Gerðið er frá árinu 2007 og var framlag Íslendinga á Feneyjarbíenalnum, það sama ár. Trú á hulinsheima hefur fylgt Íslendingum frá upphafi byggða, enda segir sagan að þau hafi komið á sama tíma og mannfólkið til íseyjunnar í norðri. Sögur af samskiptum milli vídda er partur af náttúrunni sjálfri og virðingu sem skal halda í heiðri andspænis því sem jörðin hefur skapað.
22 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Gerðið eftir Steingrím Eyfjörð, dregur fram mikilvægan part í samsettri vitund norrænna manna, kastar á hann ljósi, gerir eðlið skynjanlegt. Tækni hefur haft slík áhrif á félagsrými samtímans, sem skilgreindur hefur verið sem síð-mannlegur, að tíminn sjálfur hefur verið fluttur til í samfellu tíma og rúms. Tæknin hefur fryst tímann um leið og hún hefur flýtt honum; Þetta hefur brenglað skyn hugverunnar og hleypt að og breitt út félagslegan ímyndarheim [e. social imaginary] sem einkennist af tvíræðni og tímaleysi. Stafræn tækni og sýndarsamfélög hafa sett sýnilegt mark á ívaf samfélagsins og á það líka við um vinnusiðferði, menningu og félagslegan ímyndarheim, þar sem á sama tíma birtast vel snyrtir, dáðir og dýrir líkamar, eins og líkamar Kardashian fjölskyldunnar er dæmi um og óþrifalegir, öllum til ama, líkamar flóttafólks. Þetta er hvor sínt hliðin á sama peningnum. Gerðið býður þér, áhorfandanum að staldra við og finna lífræna álfinn í eigin líkama, þannig eru álfar menn. Sýningarstjóri var Helga Þórsdóttir safnstjóri. 4.5 LISTAHÁTÍÐ BARNA Í REYKJANESBÆ, 2020. Sýningar á listahátíð barna fór fram með óhefðbundnum hætti nú þegar hún var haldin í 15. sinn, sökum heims faraldurs sem enn sér ekki alveg fyrir endann á. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar, allra 10 leikskóla bæjarins, allra 6 grunnskólanna, tónlistarskólans, dansskólanna og listnámsbrautar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og er virðing fyrir börnum, störfum þeirra og þörfum höfð að leiðarljósi, yfirskrift ársins var kynjaverur úr íslenskum þjóðsögum.
Í ljósi þess að ekki var gerlegt að halda listahátíð barna með hefðbundnu sniði árið 2020 vegna samkomutakmarkana og skerðingu á skólastarfi var brugðið á það ráð að heimsækja skólana og skrásetja rafrænt þann undirbúning sem var búinn að eiga sér stað í aðdraganda hátíðarinnar. Listahátíðin er lokapunktur á löngu lærdómsferli sem nemendur og kennarar deildu með menningarfulltrúa Reykjanesbæjar og safnstjóra Listasafns Reykjanesbæjar. Unnir voru tveir þættir með vinnu barnanna, upptaka og eftirvinnsla var unninn af Degi Jóhannssyni. Þættirnir eru aðgengilegir á Facebook síðu Listasafns Reykjanesbæjar og Youtupe síðu Listasafns Reykjanesbæjar.
5. ÚTGÁFA, MIÐLUN OG RANNSÓKNIR 5.1 Samfélagsmiðlar 5.1.1 VEFUR: REYKJANESBAER.IS/LISTASAFN Á vefnum eru veittar upplýsingar um starfsemi safnsins með áherslu á sýningar og viðburði. Þar er að finna gott yfirlit yfir sýningar safnsins frá upphafi auk ýmissa hagnýtra upplýsinga. Slóðin er reykjanesbaer.is/listasafn
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 23
5.1.2 LISTASAFN REYKJANESBÆJAR Á FACEBOOK Samkvæmt upplýsingum frá Facebook voru fylgjendur Listasafns Reykjanesbæjar 1092 þann 1. janúar 2020. Hópur fylgjenda safnsins óx jafnt og þétt yfir árið og við lok desembermánaðar 2020, voru þeir orðnir 1576, eða með öðrum orðum þá stækkaði hópurinn um 484 einstaklinga á 12 mánuðum. Fylgjendur safnsins sjá alla nýja pósta frá safninu og eru því líklegir til að smella á efnið sem er framsett á síðu safnsins. Einstaklingar sem gerðu Listasafn Reykjanesbæjar að ánægjuefni frá 1. janúar 2020 til 1. janúar 2021, voru 145. Samanlagður fjöldi þeirra sem hafa líkað við Listasafn Reykjanesbæjar er núna 1574. Tölfræði frá Facebook sýnir að flest áhorf koma frá organískri dreifingu í gegnum fagsíður, eða um 54.2 %. Listasafn Reykjanesbæjar hefur aldrei keypt boost eða borgað fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum.
24 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 25
5.2 PRENTUN Listasafn Reykjanesbæjar, lét hanna og prenta þrjár veglegar sýningarskrár á árinu 2020, þær eru:
Nokkur dæmi um áhorf á myndbönd unnin af Listasafni Reykjanesbæjar og birt á Facebook síðu safnsins: 1. Listahátíð Barna í Reykjanesbæ, birt þann 27.5.2020 3,1 þ. 2. Gjörningaklúbburinn, birt þann, 1.12.2020, áhorf 2,2 þ. 3. Prent og vinir, birt þann, 8.11.2020, áhorf 1,9 þ 4. Steingrímur Eyfjörð, birt þann 15.6.2020, áhorf 1,8 þ. 5. Innskot: Viðtal við Loja Höskuldsson, birt þann, 11.5.2020, áhorf 1,7 þ. 6. Upphaf aldauðans: Leikskólinn Vesturberg málar geirfuglinn, 14.12.2020, áhorf 1,6 þ. 7. Viðtal við Margréti Elísabetu Ólafsdóttur, birt þann 17.7.2020 áhorf 1,5 þ. 8. Listahátíð barna: Eldri börn og unglingar, birt þann 3.6.2020 áhorf 1,5 þ. 9. Daði Guðbjörnsson, birt þann 2.11.2020, áhorf 1,4 þ. 10. Viðtal við Harald Karlsson, birt þann 22.6.2020, áhorf 1,4 þ. Áhorf á efni Listasafns Reykjanesbæjar, árið 2020 var 42.719, miðað við árið 2019 sem sýndi 2.355 áhorf. Öll dreifing er organísk án boosts.
1. Ágústmyndir September-manna, prentuð sýningarskrá 2. Safnasafn, prentuð sýningarskrá 3. Gjöf Daða, prentuð sýningarskrá
5.1.3 INSTAGRAM OG AÐRIR SAMFÉLAGSMIÐLAR Instagramreikningur Listasafns Reykjanesbæjar fer vaxandi. Safnið stofnaði nýjan reikning í júní árið 2020, þar sem ekki var hægt að nota eldri reikning safnsins. Á þeim tíma sem safnið hefur verið á Instagram í núverandi mynd voru fylgjendur okkar 714, í lok desember 2020. Fylgjendur safnsins á Instagram er ört vaxandi hópur. Hlaðvörp. Þann 11. september byrjaði safnið að setja hlaðvarpsþætti í hlustun á Spotify, iTunes og öllum símaforritum þar sem hægt er að hlusta á hlaðvörp. Hlustað hefur verið frá upphafi um 80 sinnum á þætti safnsins. Fólk virðist horfa meira á viðtölin, en hlustendum fer fjölgandi. Listasafn Reykjanesbæjar er einnig með YouTupe rás, þar sem allt framleitt hreyfimyndaefni safnsins er aðgengilegt.
26 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Stefna forstöðumanns Listasafns Reykjanesbæjar, er að gefa út rafrænar sýningarskrár sem liðí sjálfbærni og umhverfis hugsun. Safnið stefnir þó að útgáfu bókar árið 2023, þegar safnið verður 20 ára. 5.3 LEIÐSAGNIR Leiðsagnir listamanna eða sýningarstjóra er fastur liður í tengslum við miðlunarhluta sýninganna auk þeirra kynninga sem starfsmenn safnsins veita á hverju sýningartímabili. Allar sýningar Listasafns Reykjanesbæjar hafa staðið fyrir leiðsögnum um myndheim listamannanna á síðasta ári til dæmis með rafrænum hætti ef ekki var hægt að bjóða fólki að koma saman sökum samkomubanns. • Safnið tók viðtal við Aðalstein Ingólfsson, sýningarstjóra í tengslum við sýninguna Sögur úr Safnasafni. Ekki var hægt að bjóða fólki að koma saman á sýningartímanum. • Leiðsögn um sýninguna Innskot var haldin á safninu og var Anton Valsson, heimspekingur fenginn til að ræða við listamennina og koma með hugleiðingar varðandi sýninguna.
• Leiðsögn um sýningu Haralds Karlssonar, fór fram með rafrænum hætti. • Leiðsögn um sýningu Steingríms Eyfjörð, fór fram með rafrænum hætti. • Leiðsögn um sýninguna Áfallalandslag var rafræn, en þó náðist ein leiðsögn á safninu með Halldóri Ásgeirssyni áður en til samkomubanns kom. • Leiðsögn um sýningu Daða Guðbjörnssonar var rafræn sökum samkomubanns. • Leiðsögn um sýningu List 365, var rafræn sökum samkomubanns. 5.4 HEIMILDAÖFLUN Heimildaöflun fylgir öllum sýningunum í Listasalnum. Upplýsingum um hvern einasta listamann sem þar sýnir er safnað saman og þær skráðar, s.s. menntun, yfirlit yfir allar sýningar og önnur störf sem viðkomandi hefur unnið í tengslum við myndlist. Öll verk á sýningunni eru ljósmynduð og skráð með heitum, stærð, hvenær unnin, úr hvaða efni o.fl. sem nauðsynlegt þykir að fylgi hverju verki. Þessar heimildir eru allar geymdar í skrám safnsins. Heimildarvinnu um myndlist og myndlistarmenn á Suðurnesjum sem hófst árið 2004 er áfram haldið og nýjar upplýsingar koma fram á hverju ári. Við skráningu safnkostsins á árinu komu einnig fram ýmsar nýjar upplýsingar sem ávallt eru settar jafnóðum í Sarp.
5.5 SAFNAKENNSLA Samkvæmt sýningarstefnu safnsins er lögð áhersla á gott samstarf við skólana í bænum og upplýsingar um sýningar safnsins sérstaklega kynntar þeim. Jafnframt tekur forstöðumaður safnsins á móti hópum, veitir leiðsögn um sýningarnar og/eða leggur fyrir verkefni í samvinnu við kennarana sem fylgja hópunum. Það hefur sýnt sig að það fer mjög eftir eðli sýninganna hversu mikið aðdráttarafl þær hafa fyrir nemendahópa. Einstaka sýningar slá í gegn á meðan aðrar draga til sín færra fólk. Það verður hins vegar að segjast að nemendaheimsóknirnar virðast að mestu einskorðast við þá skóla sem eru í göngufæri frá safninu, þ.e. Heiðarskóla, Holtaskóla og Myllubakkaskóla og eru sömuleiðis bundnar við einstaka kennara.
Safngeymslur eru í Ramma, Seylubraut 1.
Forstöðumaður safnsins hefur sinnt fræðslustarfi hingað til, en ljóst er að hægt er að gera mun betur er varðar fræðslu starf hjá safninu og munar þar mest um að fá fleiri stöðugildi til þess að safnið geti sinnt fræðsluhlutanum betur.
Loka þurfti Safnahúsunum tvisvar sinnum vegna heims faraldursins, 23. mars, 4. maí og svo aftur 31. október til 5. desember, auk þess sem fjöldatakmarkanir voru í gildi lungann úr árinu.
6. HÚSNÆÐI OG REKSTUR
6.2 STARFSFÓLK LISTASAFNS REYKJANESBÆJAR Fastráðið starfsfólk: Helga Þórsdóttir, forstöðumaður safnsins, 100% staða.
6.1 HÚSNÆÐI OG OPNUNARTÍMI Listasafnið er einn af rekstraraðilum Duus Safnahúsa sem er menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar og þar eru aðal sýningarsalir safnsins, Listasalur og Bátasalur. Einnig hefur safnið verið með sýningar í Bíósal og Stofunni sem einnig eru í Duus Safnahúsum.
Opnunartími safnsins var alla daga frá 12.00-17.00. Þess utan er opið þegar þurfa þykir, bæði fyrr á morgnana og fram á kvöld. Síðastliðið starfsár í Duus Safnahúsum litaðist mjög af COVID-19 heimsfaraldrinum. Heildargestafjöldi ársins var 6.581 sem er 74% fækkun frá árinu 2019 en þá voru gestir 25.268. Þó var mjög ánægjulegt að innlendum gestum fjölgaði um 70% á milli 2019 og 2020 í júní, júlí og ágúst og spilar þar líklega inn í öflug markaðssetning hjá Reykjanesbæ s.l. sumar, öflug kynning á sýningum safnanna á rafrænum miðlum og ókeypis aðgangur í húsin.
Starfsfólk sem starfar tímabundið undir merkjum atvinnuátaks: Starfsfólk með 6 mánaða samning: Helga Arnbjörg Pálsdóttir, listfræðingur, er með stöðu sérfræðings, 100% staða. Dagur Jóhannsson, tæknimaður, er með stöðu safnvarðar 1, 100% staða.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 27
Starfsfólk með 3 mánaða samning: Sigurður Stefán Ólafsson, staða safnvarðar 1, 100% staða. Jóhann Baldursson, staða safnvarðar 1, 100% staða. Samtals stöðugildi yfir árið 2020: Listasafn Reykjanesbæjar er einungis með eitt fast stöðugildi og er það starf forstöðumanns. Safnið hefur fengið fólk til starfa í gegnum atvinnuúrræði á árinu 2020 og munu Helga Arnbjörg Pálsdóttir, Dagur Jóhannsson og Sigurður Stefán Ólafsson, vera verkefnaráðin eftir að úrræðinu sleppir. Samtals voru stöðugildin hjá listasafni Reykjanesbæjar árið 2020 2.5. 6.3 GESTAFJÖLDI Aðgangseyrir var tekinn upp frá og með 1. janúar 2016 og kostaði kr. 1.000 inn í Duus Safnahús og þar með á sýningar listasafnsins. Eldri borgarar, öryrkjar og námsfólk fengu afslátt og einnig fékkst afsláttur fyrir hópa. Ókeypis var fyrir börn að 18 ára aldri. Vegna farsóttar og samkomu takmarkana var ákveðið að hafa frítt inn á safnið frá og með 1. maí 2020. Listasafn Reykjanesbæjar er ekki með rekstur Duus Safnhúsa á sínum bókhaldslykli, fer því innkoma af miðasölu inn á sýningar safnsins til Menningarfulltrúa Reykjanesbæjar.
28 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Gestafjöldi: 2020
2019
Gestafjöldi
6.581
25.268
Innlendir gestir
5.487
19.045
Erlendir
1.094
3.719
Fjöldi innlendra hópa
14 (420 gestir)
35 (923 gestur)
Fjöldi erlendra hópa
2 (73 gestir)
6 (151 gestir)
Nemendur
550
1.874
6.4 REKSTRARUPPGJÖR ÁRIÐ 2020 Kostnaður af rekstri Listasafnsins árið 2020 var 30.012.613 kr. og þar af var stærsti hlutinn 17.807.402 kr. ætlaður í laun og launatengd gjöld. Megin kostnaður við safnið er greiddur af Reykjanesbæ en ýmsir styrkir hafa þó fengist í ákveðin verkefni.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja, sem sækir fé sitt til ríkisins og deilir út hér á svæðinu, hefur reynst safninu drjúgur og þaðan fengust -800.000 kr. vegna sýningarinnar Sögur úr Safnasafni. Einnig sækir safnið árlega styrk til Safnasjóðs ríkisins sem eitt af viðurkenndum söfnum landsins, þaðan komu eftirfarandi styrkir 2020: Sýning sem hverfist um tölur, -1.750.000 kr. Listahátíð barna í Reykjanesbæ, -1.000.000 kr. Auka úthlutun, Um ósýnileika Bjargar Þorsteinsdóttur og Daði Guðbjörnsson, að upphæð -1.200.000 kr. Samtals voru styrkir til Listasafns Reykjanesbæjar -4.750.000 kr. árið 2020. Aðrir styrkir um -5.800.000 kr. eru eldri styrkir sem færðir hafa verið milli ára og koma frá Reykjanesbæ. Rekstrarniðurstaða Listasafns Reykjanesbæjar árið 2020, er 28.162.613 kr.
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 29
7. LOKAORÐ Óhætt er að halda því fram að miklar breytingar hafi orðið á starfsemi Listasafns Reykjanesbæjar árið 2020. Valgerður Guðmundsdóttir lét af störfum og nýr safnstjóri tók við starfinu í febrúar 2020. Einnig hafði Covid heimsfaraldurinn mikil áhrif á starfsemi Listasafns Reykjanesbæjar, eins og annarsstaðar. Safnið brást við ástandinu með öflugri rafrænni miðlun þegar lokanir tóku gildi, ásamt því að skipuleggja nýjar sýningar. Listasafn Reykjanesbæjar opnaði fyrst listasafna nýja sýningu eftir fyrri lokanir þann 4. maí, dagurinn sem samkomubanni sleppti var safnið tilbúið með Innskot, fyrstu sýningu nýs safnstjóra Listasafns Reykjanesbæjar. Eins og fyrr segir var rafræn miðlun fyrirferðarmikil í starf semi safnsins árið 2020 og var efni safnsins mjög vel tekið bæði frá þeim sem starfa í listum sem og fyrri fylgjendum safnsins, en myndbönd Listasafns Reykjanesbæjar hafa fengið vel yfir 40.000 þúsund áhorf og gert safnið mun sýnilegra meðal listasafna á Íslandi.
30 Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020
Rafræna dagskrá safnsins útheimtir mikla vinnu að hálfu starfsfólks, sem nú þarf að reka safnið bæði í raunheimum og á alnetinu, hér er því tvöfalt vinnuálag sem ekki hefði verið mögulegt nema af því safnið fékk starfsfólk með sér þekkingu í gegnum atvinnuúrræði s.l. ár. Dagur Jóhannsson tæknimaður safnsins hefur lokið námi við Kvikmyndaskóla Íslands og er það honum að þakka hve fagmannlega mynd efni safnsins er unnið, einnig hefur Dagur ekki sparað eigin tæki til vinnslunnar og er safnstjóri honum afar þakklát fyrir hans framlag. Listasafn Reykjanesbæjar, réði Helgu Arnbjörgu Pálsdóttur, listfræðing tímabundið til starfa og hefur hún haft veg og vanda af skráningum safnsins. Listasafn Reykjanesbæjar tók við tveim stórum gjöfum árið 2020 og við það stækkaði safn kosturinn um 25%. Helga Arnbjörg er langt komin með að skrá verkin, en sjaldan hefur safnið skráð jafn mörg verk á einu ári, öll verkin eru full skráð með tilheyrandi rannsókn. Safnið fékk styrk úr Safnasjóði og frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja, sem safnið mun nota til að hafa Helgu Arnbjörgu áfram í vinnu eftir að 6 mánaða samningi við hana sleppir.
Sýningar Listasafns Reykjanesbæjar, hafa vakið mikla athygli fjölmiðla og hjá þeim sem fjalla um menningu á s.l. ári, þannig fjallaði Menninginn á RÚV um þrjár sýningar á safn inu og Víðsjá á RÚV kom í heimsókn ásamt því að nú er fjallað um sýningar safnsins hjá gagnrýnendum. Safnið gekk einnig til samstarfs við tímaritið Artzine.is, rafrænt tímarit um myndlist, um að birta samtöl sem listasafnið hefur tekið upp. Listasafn Reykjanesbæjar er afar þakklátt fyrir hina miklu athygli og viðbrögð sem það hefur fengið við sýningum og framlag safnsins til listheimsins á árinu 2020 og mun það verða safninu hvatning til góðra verka áfram. Reykjanesbæ, 17. mars 2021 Helga Þórsdóttir Safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar
Listasafn Reykjanesbæjar - ársskýrsla 2020 31
Listasafn Reykjanesbæjar http://listasafn.reykjanesbaer.is/ Duusgötu 2-8, 230 Reykjanesbær