




![]()





76. árgangur


Læknaneminn
76. árgangur
Ritstjóri:
Jakob Þórir Hansen
Ritstjórn Læknanemans:
Alma Rut Einarsdóttir
Bryndís Róbertsdóttir
Fehima Líf Purisevic
Fríða Sif Atladóttir
Karólína Mist Stefánsdóttir
Katla Rut Robertsdóttir Kluvers
Kristján Harðarson
Sara Antonía Magneudóttir
Fagleg ritstjórn:
Anna Björg Jónsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gerður María Gröndal
Karl Andersen
Hönnun og umbrot:
Ingunn Jónsdóttir
Prentun: Prentmiðlun
Upplag: 1900
Reykjavík 2026
Ávarp ritstjórnar 2024-2025..............................................
Félag læknanema................................................................
Annálar samstarfs- og undirfélaga..................................
Áhrif kulda við göngu utandyra..........................................
55 ára maður með höfuðverk og svima..........................
58 ára kona með hækkun á sýkingarparametrum........
Endómetríósa – Legslímuflakk..........................................
78 ára maður með marbletti og blóðleysi.......................
BLUS - Bráðalækningar utan sjúkrahúsa.......................
Komast íslenskir læknar í sérnám til Svíþjóðar?............
Sérnámslæknir í Danmörku...............................................
Klínísk nálgun lifrarprófa.....................................................
Grunnur augnskoðunar.......................................................
Gláka ......................................................................................
Skemmtiefni
Kennsluverðlaun Félags læknanema..............................
Skoðanakönnun Læknanemans.......................................
Hver á þessi augu?...............................................................
Krossgáta...............................................................................
Svíþjóð in situ, sub visu directo.........................................
Læknar sem þú vissir ekki að væru læknar....................
Hverra manna ert þú?..........................................................
Árgangamyndir 2024-2025...............................................
BS-verkefni 3. árs læknanema..........................................
Í lok síðasta skólaárs var útlitið ekki bjart fyrir framtíð Læknanemans. Það höfðu nánast engir boðið sig fram til að vera með í ritnefndinni á þessu skólaári auk þess sem útgáfu Læknanemans hefur hægt og rólega seinkað á skólaárinu síðastliðin ár og ekki er óþrjótandi auður af greinum og auglýsingatekjum sem standa okkur til boða að vinna úr.
En þökk sé þrautseigju og seiglu ónefnds stjórnarmeðlims, sem tók það á sig að senda persónulega á læknanema sem höfðu áhuga á vísindastarf og blaðaútgáfu til að fá samstarfsmenn með sér í nefndina, er komið að útgáfu hjá Læknanemanum.
Þó nokkrir létu til leiðast að gerast ritstjórar og gagnrýnendur samnemenda sinna, og tók þá við það starf að fá samnemendur okkar til að setjast við skriflokkina og skrifa sitthvað gáfulegt.
Síðan hefur nokkuð vatn runnið til sjávar.
Síðastliðið ár hafa deilur um kjör lækna og læknanema magnast, nýtt háskólasjúkrahús varð vindhelt og læknanemar þroskast og numið ýmsa þekkingu og færni. Sem betur fer breytast sumir hlutir aldrei, líkt og anatómían og plássastaða háskólasjúkrahússins okkar.
Það er óeigingjarnt starf að skrifa fræðslugreinar og vísindagreinar, sem tekur langan tíma og gríðarlega vinnu og elju og viljum við þakka þeim sem hafa lagt það á sig til að koma sínum hugðarefnum og vísindum á framfæri við lesendur Læknanemans.
Sömuleiðis viljum við þakka styrktaraðilum og auglýsendum sem að gera okkur kleift að koma blaðinu á laggirnar án tilkostnaðar fyrir lesendur.
Að auki er það þakkarvert starf ritrýna og faglegra ritstjóra að veita sínar ráðleggingar og rýni reyndra augna.
Að lokum viljum við hvetja komandi árganga til að leggja hönd á plóg fyrir vísindin, fræða og deila af þekkingu sinni og sjá þannig til þess að Læknaneminn lif um ókomin ár
Við vonum að þú njótir lestursins. Ritstjórn Læknanemans.


Andri Már Tómasson Forseti
Félags læknanema
2024-2025
Liðið ár var 92. starfsár Félags læknanema (FL). Nemendafélagið hefur lengi einkennst af sterku félagslíf. Það endurspeglast í því að á áttunda tug læknanema tóku þátt í nefndastarf í samstarf við eða undir félaginu. Félagsmenn töldu 227 og mun sú tala efaust hækka á næstu árum. Nokkur mál standa upp úr á starfsárinu og langar mig að reifa þau hér. Læknanemar hafa aldrei verið feiri við deildina en 75 voru tekin inn á fyrsta árið Þetta er fyrsti liður í skipulagðri fölgun læknanema sem stjórnvöld hafa kallað eftir. Þetta gerðist ekki án undirbúnings og vert er að þakka fyrirrennurum mínum og þeirra stjórnum þeirra ötulu vinnu sem þurfti til að undirbúa þessa fölgun. Að öllu töldu virðist þetta fyrsta ár hafa gengið vel og er greinilega pláss fyrir þennan földa í B.S. hluta námsins. Flöskuhálsinn, sem FL hefur áhyggjur af og hefur varað við, verður að sjálfsögðu klíníski hluti námsins. Samtöl við eldri lækna gefa glögglega til kynna að námstækifærin eru nú þegar skert miðað við þegar færri nemar voru við deildina og er fyrirséð að þeim muni fækka enn frekar þegar þessi árgangur kemur á fórða ár ef engar breytingar verða. Mikil vinna er í gangi meðal umsjónarkennara fórða ársins til þess að rúma þennan aukna földa læknanema. Einnig eru forsvarsmenn deildarinnar afar hörð á að frekari fölgun verði ekki fyrr en reynsla hefur fengist af þessari stærð hóps í klínísku námi. Það er vel og mun stjórn FL fylgja þessu máli eftir.
Annað stórt mál hefur verið vottun læknanáms á Íslandi. Til þess að íslenskir læknar frá HÍ geti komist til Bandaríkjanna í
sérnám þarf að votta nám skólans. Það ferli var sett í gang á yfrstandandi ári og heldur áfram á því næsta, þegar sem sendinefnd úttektarstofurnar kemur í heimsókn. Meðal annars verða tekin rýniviðtöl við læknanema og erum við spennt að segja frá skólanum okkar.
Á starfsárinu voru stofnuð tvö ný félög af læknanemum, Félag áhugamanna um lyfækningar (FÁL) og Félag áhugafólks um skurðaðgerðir og bráð inngrip (FÁSBI). Þessi félög (e. society) eru að bandarískri fyrirmynd og hefur starfð verið gríðarlega metnaðarfullt á árinu sem leið. FÁL fékk til að mynda veglegan styrk frá Félagi lyfækna og hafa félögin verið iðin við að halda fræðsluviðburði og æfngar fyrir nema af öllum árum. Félag læknanema sá sér leik á borði og afenti forsprökkum félaganna sérstök læknanemaverðlaun á Árshátíð Grand en þessi verðlaun eru aðeins veitt læknanemum við sérstök tilefni og eru verðlaunin bæði veitt fyrir góð störf sem og hvatning til frekari dáða. Undir lok apríl kom upp afar stórt mál. Læknanemar fengu blauta tusku í andlitið þegar laun klínískra læknanema fyrir sumarið voru gefn út. Venjan hefur verið að læknanemar fái hlutfall af launafokki sérnámsgrunnlækna (og kandídata þar á undan). Launahlutfallið hefur verið 8085% fyrir fórða árs nema og 90-95% fyrir fmmta árs nema. Kjara- og mannauðssýsla ríkisins, stofnunin sem ákveður þessi laun, lækkaði þetta hlutfall um tíu prósentustig fyrir fmmta árs nema, og fmm fyrir fórða árs nema. Nýr kjarasamningur Læknafélags Íslands við ríkið tryggði m.a. veglega hækkun grunnlauna unglækna en með þessu móti myndu læknanemar ekki njóta góðs af hækkuninni. Tölurnar gáfu skýrt til kynna að laun læknanema myndu lækka í einhverjum tilfellum og í hið minnsta vera undir þeirri 3,5% hækkun sem fólk á almennum launamarkaði mætti búast við Enn verra var að breytingin hefði það í för með sér að læknanemar sem störfuðu í apríl
og maí í tímavinnu samhliða skóla myndu lækka í launum án fyrirvara! Stjórn félags læknanema tók málið strax föstum tökum og hefur málið verið í vinnslu með aðstoð Læknafélags Íslands. Málinu er langt frá því að vera lokið þegar þessi grein er rituð, en það er einlæg von að þegar þið, kæru læknanemar, fáið blaðið í hendurnar muni því að hafa lokið á farsælan máta. Málið endurspeglar þó stærri vanda sem hefur verið einkennandi í baráttu Félags læknanema síðasta áratuginn. Læknanemar standa utan stéttarfélaga en eru með hlutaðild að Læknafélaginu þar sem við fáum ákveðna grunnþjónustu. Afeiðingin af því að vera ekki formlega í stéttarfélagi er að við höfum engan kjarasamning til að fara eftir þegar við þiggjum laun fyrir störf okkar. Aðalmarkmið næsta veturs verður að fá skrifegan samning þar sem ásættanlegt kaup læknanema liggur fyrir og munum við vinna að því í samstarf við Læknafélagið. Starfsárið gekk afar vel og má því m.a. þakka sterkri fárhagsstöðu félagsins. Viðburðir voru margir, veglegir og vel sóttir og er almenn ánægja meðal félagsmanna með fölgun í okkar röðum. Félagsgjöld eru mjög lág miðað við önnur sambærileg nemendafélög og er félagið ekki einungis ætlað til skemmtunar eins og sést glögglega af ofantöldum hagsmuna- og baráttumálum ársins. Næsta starfsár verður stórt veisluborð þar sem, utan við hefðbundna dagskrá, mun vera haldið þing norrænna læknanema hér í Reykjavík. Það eru sannarlega spennandi tímar framundan. Það hefur verið mér sannur heiður að leiða þetta sögufræga nemendafélag og þakka ég stjórninni fyrir gott samstarf. Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg í hagsmunabaráttu læknanema á liðnu ári, án þess að vera sérstaklega beðin um það eða kosin til þess. Samstaðan í okkar stétt er engri lík og eru mörg sem vinna óeigingjarnt starf í þágu kollega sinna. Kærar þakkir til ykkar.
Virðingarfyllst, Andri Már Tómasson, forseti Félags læknanema

Birta Rakel Óskarsdóttir
Formaður 2024-2025
Starfsár Alþjóðanefndar 2024–2025 var að venju viðburðaríkt. Það hófst með hinum árlega aðalfundi Alþjóðanefndar læknanema sem haldinn var 27. september 2024 í veislusal Stúdentagarða að Lindargötu. Afar góð mæting var á aðalfundinn en þar var hið liðna starfsár gert upp, ný stjórn tók við af þeirri gömlu, auk þess sem læknanemarnir Jóhanna Vigdís og Þórunn Perla sögðu frá reynslu sinni af skiptinámi í Túnis.

Hjörtur Viðar Sigurðarson
Formaður 2024-2025
Fulltrúaráð ríghélt í sínar traustustu hefðir og reyndustu venjur á síðastliðnu skólaári, en dreypti þó örlítilli nýsköpun ofan í prógrammið. Nefndin þurfti að bregðast við fölgun í deildinni er hún fékk 75 nýnema af óvenju jöfnum kynjahlutföllum í fangið, sem leiddi til aukinna útgjalda og umsvifa sem herti deilur okkar við gjaldkera, fármálaráð og peningastefnunefnd FL. Allt fór vel að lokum; við fengum að halda okkar viðburði og FL fór ekki á hausinn (þvert á móti).
Yfrleitt er sumarútilegan fyrsti viðburður ársins en þrátt fyrir háleit markmið um golfmót og kjallara-rave ákvað veðurguðinn að henda í PR í úrkomu einmitt þá helgi svo við þurftum að blása útileguna af (ekki sofa á golfmótinu samt, við munum tala fyrir því þar til við erum útskrifaðir). De facto fyrsti viðburðurinn var því nýnemaferðin þar sem enn eitt félagsheimilið í Borgarfrði fékk að kenna á því. Mætingarmetið var slegið og aldrei hafði nefndin ferjað annað eins magn
Yfr skólaárið sjálft eru aðalverkefni nefndarinnar undirbúningur komu erlendra skiptinema og að aðstoða skiptinema frá HÍ við að undirbúa dvöl sína í viðkomandi landi, en skiptinámið sjálft fer yfrleitt fram yfr sumarmánuðina. Auk undirbúnings fyrir komandi skiptinám eru nefndarmeðlimir oft duglegir að sækja ráðstefnur. Í ár fór mest fyrir samnorrænu ráðstefnunni FINO en þangað sendi Alþjóðanefnd fóra fulltrúa. FINO 2024 var haldin í Árhúsum, þemað í ár var “Sexual and Reproductive Health” og var að venju vel lukkuð ráðstefna.
Þess má geta að FINO 2025 verður haldin heima á Íslandi og eru fórir nefndarmeðlimir Alþjóðanefndar einnig í skipulagsnefnd FINO en undirbúningur fyrir FINO 2025 hófst strax í september 2024.
16.maí var síðan komið að hinu árlega Bingói Alþjóðanefndar. Ólíkt fyrri árum var
bingóið haldið eftir vorprófn en ekki í kringum páska. Veðrið var eins og það best gerist á Íslandi, hátt í tuttugu gráður og sól. Þrátt fyrir frábært veður var metmæting og hagnaður af bingóinu í ár, enda andvirði vinninga vel yfr tvær milljónir! Þar vorum við svo heppin að hafa frábæru kynnana Benedikt Burkna Þorvaldsson Hjarðar, Egil Logason og Hjalta Dag Hjaltason sem héldu uppi stemningunni. Aðalstarf Alþjóðanefndar er svo um sumarið þegar skiptinámið sjálft fer fram. Í ár fóru níu íslenskir skiptinemar í skiptinám: tveir til Túnis, einn til Japans, fmm til Brasilíu og einn til Hollands. Við tókum síðan á móti 14 skiptinemum frá fölmörgum löndum, þ.e. Brasilíu, Kasakstan, Kúrdistan, Túnis, Úkraínu, Hollandi, Serbíu og Egyptalandi.
Að lokum vil ég færa innilegar þakkir til nefndarmeðlima Alþjóðanefndar fyrir vel unnin störf á þessu skemmtilega og viðburðarríka ári.

Vigfús Höskuldur Orri Árnason
Formaður 2024-2025
af áfengi gegnum göngin sem kláraðist engu að síður allt fyrir kvöldmat. Nóteruðum hjá okkur að fyrir næsta ár þyrfti einfaldlega ennþá meira.
Fljótlega eftir nýnemaferðina fóru vísindaferðirnar að rúlla svo læknanemar héldust hæflega hífaðir þar til Árshátíð LITE gekk í garð – og þá var loksins hægt að hlaupa almennilega af sér hornin. Þakið hélst varla ofan á Sjónarhóli og í raun var alveg ótrúlegt að okkur barst ekki ein einasta kvörtun eftir kvöldið (reyndar eru læknanemar frekar dannaðir upp til hópa svo yfrleitt gengur allt vel fyrir sig). Þessi einstaka hefð að halda tvær árshátíðir heldur áfram að gefa þökk sé m.a. Herdísi og Haffa Coach (class of '25) sem tóku upp á þessu hérna í den. Nýjustu leikmennirnir okkar, Leon Andri og Anna Rakel, komu inn af krafti og sáu um frábæra uppsetningu á Læknaleikunum, haustdrykkjuviðburði deildarinnar, þar sem keppt er í drykkjuleikjum af ýmsu tagi.
Auk þess skipulögðu þau fótboltamótið sem hefur verið einn allra skemmtilegasti viðburður skólaársins undanfarin ár, þótt við segjum sjálfr frá. Þar tefa bekkir fram sínu öfugasta liði og leggja heiðurinn að veði, ásamt því að eiga möguleika á safaríkum vinningum. Skíðaferðin var á sínum stað. Eins og með allar íslenskar skíðaferðir er svona 50/50 séns hvort það sé opið í fallið en 100% líkur á að opið sé á Götubarnum. Háskólinn í Reykjavík var líka í skíðaferð sem varð til þess að stemningin á Akureyri líktist einhverskonar mini-þjóðhátíð; 2-3 djammandi háskólanemar per fermetra í bænum og varla hægt að komast að í sundlauginni. Alvöru negla þetta árið
Loks er það okkar Magnum Opus: Árshátíðin, oft nefnd Árshátíð Grand svo henni sé ekki ruglað saman við litla bróður. Gullhamrar tóku á móti metfölda læknanema, hver í sínu fínasta pússi (okkur þótti reyndar fátt um falleg bindi þetta árið, gerið betur næst drengir) og Páll Óskar gerði allt vitlaust. Nefndin þakkar fyrir skólaárið og minnir á að partýstand má aldrei bera fagmennskuna ofurliði.

Viktor Ásbjörnsson
Formaður 2024-2025

Skólaárið 2024–2025 markaði tólfta starfsár Bjargráðs, félags læknanema um skyndihjálp, og er það áfangi sem vert er að fagna. Árið hófst líkt og undanfarin ár með Bjargráðsviku fyrir fyrsta árs læknanema. Vikan gegnir lykilhlutverki í að vekja áhuga nýrra nemenda á mikilvægi skyndihjálpar og réttra viðbragða í bráðum aðstæðum. Í ár óskuðum við eftir endurgjöf frá nemendum um framkvæmd og upplifun þeirra af vikunni. Viðbrögðin voru afar jákvæð og staðfestir að vel hefur tekist að bæta og þróa viðburðinn.
Þetta starfsár var jafnframt það fyrsta eftir lagabreytingu frá fyrra ári sem kvað á um að fórir nefndarmeðlimir yrðu teknir inn

Katrín María Ólafsdóttir
Formaður 2024-2025
Tuttugasta og fmmta starfsár Ástráðs hófst með undirbúningi fyrir verkefni komandi veturs. Ástráðsvikan var haldin í upphaf haustannar hjá nemendum á öðru ári læknisfræðinnar í samstarf við Læknadeild Háskóla Íslands. Þar sátu verðandi fræðarar fyrirlestra úr ýmsum áttum sem komu að

Anna Sif Mainka Sveinsdóttir
Formaður 2024-2025
Eins og oft áður var nóg að gera hjá Lýðheilsufélagi læknanema. Hinn víðfrægi og sívinsæli Bangsaspítali var haldinn á fórum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Þar á meðal var hann haldinn í fyrsta
Bjarki Leó Snorrason
Formaður 2024-2025
af fyrsta ári frekar en tveir eins og síðustu ár. Markmið breytingarinnar var að létta álagi af fyrsta árs nemum sem standa að utanumhaldi og fræðslu félagsins í menntaskólum landsins. Reynsla okkar af breytingunni hefur verið mjög góð og álagið dreifðist betur. Alls voru haldnir 94 fyrirlestrar víðs vegar um landið, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, og gengu þeir afar vel.
Stórslysaæfngin var haldin með pompi og prakt í ár með þátttöku fulltrúa frá Kennsluráði, Bjargráði og sérnámslæknum Landspítala. Rúmlega 50 læknanemar mættu og sinntu misjöfnum hlutverkum þar sem
1. árið lék sjúklinga, 2. og 3. árið sinntu futningum, 4. árið sinnti bráðafokkun og 5. og 6. árið voru í hlutverki lækna á söfnunarsvæði slasaðra. Æfngin vakti athygli fölmiðla og í kvöldfréttum var sýnt frá æfngunni. Að æfngu lokinni gæddu læknanemar sér á pizzum í boði Dominos. Stórslysaæfng er haldin á tveggja ára fresti og því er stefnt að halda næstu stórslysaæfngu árið 2027.
Einnig var farið í hina árlegu vísindaferð í Landhelgisgæsluna, þar sem nemar fengu kynningu frá þyrlulækni um starfsemi gæslunnar. Gengið var um fugskýli þar sem nemendur fengu tækifæri til að skoða tæki eins og björgunarþyrlur og fugvélar gæslunnar. Að kynningu lokinni bauð Bjargráður upp á pizzur og drykki í Læknagarði.
Starfsárinu lauk með sameiginlegu lokahóf með Ástráði. Þar var farið yfr liðið ár og verðlaun veitt fyrir festa fyrirlestra.
Fyrir hönd Bjargráðs, félags læknanema um skyndihjálp, þökkum við kærlega fyrir liðið ár og ánægjulegt samstarf.
málefnum kynheilbrigðis. Vikan endaði loks með vel heppnaðri ferð út á land með þann tilgang að hrista hópinn saman og kynnast betur.
Kjarnastarfsemi félagsins, fyrirlestrar fyrir fyrsta árs framhaldsskólanema um kynlíf og kynheilbrigði, hófst í september. Alls voru haldnir rúmlega 90 slíkir fyrirlestrar yfr veturinn. Þriðja árs læknanemar sáu einnig um fræðslu í grunnskólum og aðra óhefðbundnari fyrirlestra – samtals 34 að þessu sinni.
Í vetur var tvisvar haldin Kynhvöt, fræðslu- og skemmtikvöld Ástráðs þar sem blandað er saman fróðleik og skemmtun, fyrir fræðara vetursins. Auk þess endaði veturinn á sameiginlegu lokahóf Ástráðs og Bjargráðs,
til að fagna vel unnum störfum.
Í september var ný og uppfærð vefsíða Ástráðs birt og erum við afar ánægð með útkomuna. Þá tók Ástráður einnig þátt í fölþjóðlegri samfélagsmiðlaherferð á vegum European Center of Disease Control (ECDC) í mars. Markmið herferðarinnar var að vekja athygli á vaxandi dreifngu kynsjúkdóma, mikilvægi forvarna og hvetja fólk til að mæta í kynsjúkdómatékk.
Ég þakka kærlega fyrir frábært starfsár –öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum, stjórn Ástráðs, fræðurum, styrktaraðilum og þeim sem sátu fyrirlestra hjá okkur. Ég hlakka mikið til komandi árs og óska næstu stjórn Ástráðs góðs gengis!
sinn á heilsugæslunni á Seltjarnarnesi. Bangsaspítalinn lagði einnig leið sína norður á Akureyri í þriðja sinn með góðum móttökum eins og alltaf.
Við létum ekki við þar sitja heldur héldum tvær hópæfngar á skólaárinu. Annars vegar stórskemmtilega Worldft æfngu í boði WorldClass með mjög góðri mætingu og bilaðri stemningu og hins vegar kröftuga þrekæfngu hjá Mjölni sem allir gátu minnst daginn eftir með strengjum. Í febrúar bauð Lýðheilsufélagið upp á fræðslukvöld þar sem hjúkrunarfræðingar frá Rauða Krossinum komu og héldu fræðsluerindi um skaðaminnkandi þjónustu á Íslandi.
Síðast en ekki síst var Blóðgjafarmánuður HÍ haldinn annað árið í röð eftir langt hlé. Blóðbankabíllinn kom fyrir utan aðalbyggingu Háskólans og myndaðist löng röð allan daginn þar sem nemendur, kennarar og rektorsefni nýttu tækifærið til að gefa blóð. Í tilefni blóðgjafarmánaðarins héldum við barsvar (e. pub quiz) á Stúdentakjallaranum með veglegum vinningum og miklu föri!
Stjórn Lýðheilsufélagsins var fölskipuð í ár sem var einstaklega ánægjulegt og skemmtilegt. Ég þakka Aroni, Baldvini, Elísabetu, Isabellu, Jakobi, Melkorku, Ólaf, Telmu, Unni og Þorsteini kærlega fyrir samstarfð í vetur.

Jökull S. Gunnarsson
Breiðfjörð
Formaður 2024-2025
Gjarnan gleymir maður sér í amstri dagsins. Þá er gott að nýta kærkomið tilefni til að líta yfr farinn veg þar sem ég læt nú af störfum í Kennslu- og fræðslumálanefnd, en öfugir samnemendur taka við kefinu. Ég get
Í ár var æfngin haldin í annað skiptið, þátttaka var góð og stefnan er nú að halda stórslysaæfngu annað hvert ár líkt og hefð var fyrir. Holsjárkeppnin er einnig komin aftur í gang í samstarf við Félag áhugamanna um skurðlækningar og bráð inngrip (FÁSBI). Með samstarf við FÁSBI myndast dýrmæt tengsl milli nemendafélaganna og sérnámslækna Landspítalans sem mun koma til með að auka faglegan metnað læknanema enn frekar. Líkamsskoðunarkennsla fyrir annars árs læknanema var metnaðarfull, skemmtileg og ómissandi. Aðrir fastir liðir eins og kúrsakynningar, fundaseta og mentorverkefni gengu sinn vanagang og vil ég þakka bekkjarsystkinum mínum fyrir þeirra framlag
vendikennslu stendur til í stórum kúrsum eins og lyf- og skurðlækningum á 4. ári sem er framfaraskref. Læknanemum fölgar í Háskóla Íslands sem er jákvætt við læknastéttina, en jafnframt áskorun fyrir innviði og starfsfólk Læknadeildar og Landspítala.
Unnið er hörðum höndum til að koma til móts við þennan aukna földa, en breytingarnar gerast hratt og tíminn mun leiða í ljós hversu vel mun til takast.
Ýmislegt feira vekur óvissu læknanema. Æ erfðara verður að komast í sérnám erlendis út af skrifræðisbreytingum sem enn á eftir að vinda ofan af. Einnig virðist frammistaða læknanema í prófum fara versnandi og fall í festum áföngum hefur margfaldast. Ekki




Karl Kristjánsson

Inngangur
Endurhæfng hefur að markmiði að endurheimta og viðhalda fyrri andlegri, líkamlegri og félagslegri færni og fyrirbyggja frekari skerðingu af völdum sjúkdóma og slysa. Útgangspunktur endurhæfngar er þverfaglegur1 og einn af lykilþáttum hennar er líkamleg virkni.2 Hreyfng hefur jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Ganga er aðgengilegt form hreyfngar fyrir festa en helsta hindrunin við göngu á Íslandi er meðal annars vetrarveðrið með tilheyrandi kulda og ófærð
Við kulda geta einkenni kransæðasjúkdóms aukist3 og nýgengi hjarta- og æðasjúkdóma er hæst yfr köldu vetrarmánuðina.4 Sýnt hefur verið fram á að samband kulda og dauðsfalla vegna hjarta- og æðasjúkdóma sé til staðar þótt leiðrétt sé fyrir áhrifum infúensu og loftmengunar.5 Útsetning fyrir kulda veldur virkjun á sympatíska taugakerfnu ásamt renínangíótensín kerfnu6 en kuldaáreiti á andlit líkt og verður við útiveru veldur virkjun á vagus tauginni sem hefur parasympatíska virkni.7 Rannsóknir hafa sýnt að ísvatnspróf (e. cold pressure test, hendi stungið í kalt vatn) sem kuldaáreiti veldur víkkun kransæða hjá heilbrigðum einstaklingum en benda til þess að kransæðar einstaklinga með kransæðasjúkdóm dragist saman við slíkt áreiti.8,9 Af því má álykta að blóðfæði og súrefnisframboð til hjartavöðvans sé minna hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm við kuldaáreiti samanborið við heilbrigða einstaklinga.10
Rannsóknir á álagi á hjartað við líkamlega áreynslu í kulda hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm hafa bæði bent til aukins og sambærilegs álags og hjá heilbrigðum einstaklingum.3 Greint hefur verið frá því að einstaklingar með kransæðasjúkdóm nái blóðþurrðarþröskuldi (e. ischemic threshold) í hjarta fyrr í kulda en við heitari aðstæður. Hámarks afastageta er því oft minnkuð hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm þegar kuldaáreiti er bætt við hreyfngu.3
Einstaklingar í endurhæfngu á Reykjalundi, þar á meðal einstaklingar með hjartasjúkdóma, fara allan ársins hring í
gönguþjálfun utandyra. Áhrif kulda við göngu utandyra að vetrarlagi á Íslandi hafa ekki verið rannsökuð hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm. Fáar sambærilegar rannsóknir hafa verið gerðar erlendis. Mikilvægt er því að skoða hvort að ganga utandyra í kulda sé örugg fyrir einstaklinga með stöðugan kransæðasjúkdóm. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort svörun við göngu utandyra að vetrarlagi á blóðþrýsting, hjartsláttartíðni, mæði og hjartsláttartrufanir væri frábrugðin því sem verður við sambærilega áreynslu innandyra hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm. Efniviður og aðferðir Rannsóknin er einsetra, framskyggn, forkönnunar þversniðsrannsókn. Þátttökuskilyrði voru að einstaklingar væru 18 ára eða eldri, gætu skilið og lesið íslensku eða ensku, hefðu þekktan kransæðasjúkdóm og gætu tekið þátt í gönguþjálfun utandyra í endurhæfngarmeðferð á Reykjalundi á tímabilinu 15. febrúar til 31. mars 2022. Í rannsókninni var mældur blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni með handhægum blóðþrýstingsmæli (Oscar 2TM Ambulatory Blood Pressure Monitor, SunTech Medical©). Mansétta var sett á upphandlegg þátttakenda undir útifatnað fyrir upphaf göngu. Blóðþrýstingsmælirinn var aðgengilegur í vasa utan á útifatnaði og til að hefa mælingar var ýtt á hnapp á tækinu. Einstaklingar voru með hjartasírita (Holter, Lifecard CF, Spacelabs Healthcare) sem skráði stöðugt hjartalínurit. Spurt var um mæði á Borg CR10 skala.11 Mældur var vindhraði (vindmælir, Pro Anemometer BT-100, BTMETER) í 1,7 metra hæð á göngu og lofthitastig skráð Við innskrift í endurhæfngu var gert þolpróf á þrekhjóli þar sem fylgst var með 12 leiðslu hjartasíriti og blóðþrýstingur mældur á mínútu fresti. Hámarksaföst (í vöttum) á þrekhjóli voru skráð og þoltala reiknuð (hámarksaföst/líkamsþyngd, W/kg).
Niðurstöður úr þolpróf voru notaðar til að raða einstaklingum í viðeigandi gönguhóp og til að meta ákefð við göngu í rannsókninni. Þátttakendur tóku þátt í tveimur sambærilegum göngum, einni göngu
innandyra og einni göngu utandyra, sjá mynd 1. Göngurnar voru gerðar samdægurs, ganga innandyra fyrir hádegi og ganga utandyra eftir hádegi. Teknar voru mælingar fórum sinnum í hvorri göngu. 1) sitjandi í hvíld, 2) standandi í hvíld, 3) eftir 15 mínútna göngu og 4) í endurheimt, tveimur mínútum eftir að göngu lauk. Í hverri mælingu var mældur blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni, spurt um mæði, hjartsláttaróþægindi og brjóstverk. Í göngu innandyra var annaðhvort gengið hringi í íþróttasal eða á göngubretti. Miðað var við að hraði og ákefð yrði að mati þátttakenda sambærileg þeirri göngu sem viðkomandi tók þátt í utandyra. Í göngu utandyra var gengið með gönguhópi þátttakandans. Gönguhóparnir voru þrír með mismunandi erfðleikastigi og því var áreynsla sambærileg milli hópa vegna getuskiptingar. Í gönguhópi I er genginn einn kílómeter eða styttra meðfram húsnæði Reykjalundar á upphituðum stíg og hver og einn ræður sínum gönguhraða. Í gönguhópi II er gengið lengra á gönguhraðanum 4,5 km/ klst, ýmist á sléttu eða ósléttu landslagi. Í gönguhópi III er gengið lengra á hraðanum 5-5,5 km/klst á ósléttu landslagi. Til að reikna vindkælingu, það er samspil hitastigs og vindhraða var notuð vindkælijafna Osczevski og Bluestein sem gefur eins konar upplifað hitastig.12 Þar sem Tloft táknar hita lofts í °C lesinn af hitamæli, f er vindhraði km/klst í tíu metra hæð og margfeldis- og veldisvísarnir eru reynslustuðlar.12 Miðað var við að framkvæma gönguþjálfun utandyra þegar hitastig var undir 5°C til að fram kæmu áhrif kælingar. Vindhraði var mældur eftir fmm, þrettán og tuttugu mínútna göngu í 1,7 metra hæð á gönguhraða. Leiðrétta þurfti vindhraðann til að geta nýtt jöfnu Osczevski og Bluestein þar sem hún notar vindhraða í tíu metra hæð Gert var ráð fyrir að vindhraði í 1,7 metra hæð væri 2/3 af vindhraða í tíu metra hæð 12,13 Í sjúkraskrá voru sóttar upplýsingar um kyn, aldur, hæð og þyngd ásamt upplýsingum um niðurstöður síðustu mælinga á blóðrauða, nýrnastarfsemi og salta í blóði. Staðfest var að þátttakendur hefðu skráða ICD-10 greiningu fyrir kransæðasjúkdóm. Einnig voru sóttar
Mæling 1: Sitjandi í hvíld
Mældur blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni
Spurt um mæði (Borg CR10), hjartsláttaróþægindi og brjóstverk
Mæling 2: Standandi í hvíld
Mældur blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni
Spurt um hjartsláttaróþægindi og brjóstverk
5 mín
13 mín
15 mín
upplýsingar um aðrar ICD10 greiningar hjarta- og æðasjúkdóma og upplýsingar um lyfanotkun vegna þessara sjúkdóma.
Tölfræðileg úrvinnsla var unnin í RStudio 2022.02.0+443 og Microsoft Excel 365 útgáfu 2307. Normaldreifng var athuguð með Shapiro-Wilk próf. Gerður var samanburður á niðurstöðum innan- og utandyra þar sem notað var parað t próf ef gögn fylgdu normaldreifngu, annars Wilcoxon próf. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p<0,05. Niðurstöður eru settar fram sem meðaltöl og staðalfrávik nema annað sé tekið fram. Áður en rannsókn hófst lá fyrir leyf frá Vísindasiðanefnd (VSNb2022010014/03.01). Allir þátttakendur undirrituðu upplýsta samþykktaryfrlýsingu.
Hvorki var hægt að greina marktækan mun á hjartsláttartíðni milli mælinga innan- og utandyra úr handhægum blóðþrýstingsmæli (p=0,516) né hjartasírita (p=0,145).
Mynd 2B sýnir hjartsláttartíðni fengna með handhægum blóðþrýstingsmæli ásamt meðaltals hámarkshjartsláttartíðni úr hámarksþolpróf til samanburðar.
Af mynd 2C má sjá að mæði var meiri í göngu utandyra en innandyra (p=0,013). Við nánari skoðun á gögnunum sást að einn einstaklingur skar sig úr hópi þátttakenda og greindi frá töluvert meiri mæði utandyra en innandyra, sjá mynd 2D. Ef sá einstaklingur var farlægður úr gögnunum var munurinn ekki lengur marktækur.
Vindmæling 1 utandyra*
Vindmæling 2 utandyra*
Ganga stöðvuð tímabundið
Mæling 3: Við göngu
Mældur blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni
Spurt um mæði (Borg CR10), hjartsláttaróþægindi og brjóstverk
Ganga úti Ganga inni -2 mín
20 mín
Göngu lýkur
Vindmæling 3 utandyra* Endurheimt** +2 mín
Mæling 4: Í endurheimt
Mældur blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni
Spurt um mæði (Borg CR10), hjartsláttaróþægindi og brjóstverk Ganga hefst
Lofthitastig utandyra skráð*
Mynd 1: Framkvæmd mælinga. Mælingar við göngu innan- og utandyra voru framkvæmdar að öllu leyti eins. Eini munurinn á milli ganganna var að eftir mælingu þrjú í göngu innandyra hófst ganga á formi endurheimtar í örfáar mínútur en utandyra hélt gangan áfram en hún var mislöng eftir því hvaða gönguhópi þátttakandi tilheyrði.
* Var eingöngu framkvæmt í göngu utandyra og ** var eingöngu gert í göngu innandyra.
Niðurstöður Níu einstaklingar í endurhæfngu á Reykjalundi á rannsóknartímanum samþykktu þátttöku. Þar af var einn veikur á mælingadegi og því ekki með í niðurstöðum. Þátttakendur voru á aldrinum 52-74 ára og meirihluti karlkyns, sjá töfu I. Líkamsþyngdarstuðull þátttakendanna var á bilinu 24,6-39,6 kg/ m2. Allir þátttakendurnir (n=8) höfðu kransæðasjúkdóm (ICD-10 kóði: I125.1) og þar af höfðu fórir einnig háþrýsting (I10). Tveir þátttakendur höfðu verið greindir með hjartabilun (I50.9). Öllum þátttakendum hafði verið ávísað a) segavarnalyf, b) angíótensín II viðtaka blokka (e. angiotensin II receptor blockers, ARB) eða angíótensín breytiensím hemlum (e. angiotensin-converting-enzyme inhibitors, ACE) og c) beta-blokkum eða kalsíumgangalokum. Auk þess var einn einstaklingur á þvagræsilyf ásamt kalíum. Allir þátttakendur tóku ávísuð lyf að morgni rannsóknardags. Nýjustu blóðmælingar á blóðrauða, kreatíníni, gaukulsíunarhraða, natríum og kalíum voru allar innan eðlilegra marka fyrir utan hjá einum karlmanni sem var með vægt blóðleysi, með blóðrauðagildi 128 g/L.
Flestir þátttakendur tilheyrðu gönguhópi I, sjá aðstæður við útigöngu í töfu II. Einn þátttakandi framkvæmdi göngurnar tvær ekki samdægurs heldur liðu tveir dagar á milli þeirra. Enginn greindi frá því að sér væri kalt við útigönguna, þó varð einn blautur en svör vantaði frá tveimur þátttakendum. Við helming mælinga í útigöngu var ofankoma. Hitastigið fór tvívegis í 6°C en lægst í 0°C. Hvorki reyndist munur á systólískum(p=0,160) né díastólískum þrýstingi (p=0,768) milli mælinga innan- og utandyra, sjá mynd 2A.
Hámarkshjartsláttartíðni þátttakenda í hámarksþolpróf var á bilinu 100 til 144 slög á mínútu eða um 66-85% af áætlaðri hámarkshjartsláttartíðni miðað við aldur. Hámarkshjartsláttartíðni fengin með hjartasírita í göngu innandyra var að meðaltali 90% af hámarkshjartsláttartíðni þátttakenda úr hámarksþolpróf (81-95%) en utandyra að meðaltali 94% (82-106%). Eftir 15 mínútna göngu var gangan stöðvuð fyrir mælingu þrjú og tekin blóðþrýstingsmæling. Við mælingu þrjú innandyra var hjartsláttartíðni að meðaltali 79% af hámarkshjartsláttartíðni þátttakendanna úr hámarksþolpróf (75-91%) en utandyra að meðaltali 78% (60-97%).
Enginn þátttakandi greindi frá hjartsláttaróþægindum eða brjóstverk, hvorki við göngu innandyra né utandyra. Tíðni og eðli hjartsláttaróreglu var skoðuð með hjartasírita en vegna mikils földa trufana í skráningu við göngu reyndist erftt að meta hjartsláttaróreglu. Nokkur stök aukaslög komu fyrir hjá sumum þátttakendum bæði í hvíld og í göngu en vegna tæknilegra atriða var ekki hægt að meta hvort að földi þeirra breyttist við að fara úr hvíld yfr í göngu né hvort munur væri á földa þeirra við göngu innan- og utandyra þar sem trufanir urðu á hjartarafritum.
Umræða Þessi forkönnunarrannsókn bendir til þess að gönguþjálfun utandyra í kulda í viðeigandi fatnaði sé örugg fyrir einstaklinga með stöðugan kransæðasjúkdóm varðandi hjarta- og æðakerfð. Ekki reyndist munur á blóðþrýstingi og hjartsláttartíðni í samanburði á göngu innan- og utandyra í vetrarveðri. Bendir það til þess að ákefðin haf verið sú sama í göngunum tveimur. Mæði var meiri utandyra í vetrarveðri en innandyra (p=0,013). Enginn greindi frá hjartsláttartrufunum eða brjóstverk en ekki reyndist hægt að bera saman hjartsláttaróreglu í göngu innan- og utandyra í vetrarveðri vegna trufana í hjartarafriti.
Rannsóknir á áhrifum kulda við áreynslu ná yfr fölbreytt form hvað varðar samsetningu þátttakendahóps, hitastig og gerð kuldaáreitis auk ákefðar og tímalengd áreynslunnar. Möguleiki til að bera saman niðurstöður mismunandi rannsókna er því að hluta til takmarkaður.3 Þó var hægt að sjá samræmi í niðurstöðum þessarar rannsóknar og annarra rannsókna á þessu sviði. Sambærilegar rannsóknir á blóðþrýstingi og hjartsláttartíðni hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm við áþekka líkamlega áreynslu og kuldaáreiti af sambærilegri gerð og hitastigi hafa verið misvísandi og bæði greint frá hækkun á og óbreyttum blóðþrýstingi og hjartsláttartíðni.14-18 Í þessari rannsókn kom ekki fram munur á blóðþrýstingi og hjartsláttartíðni í göngu innan- og utandyra í vetrarveðri.
Mæði er huglæg upplifun einstaklings um andþyngsli eða öndunarerfðleika sem unnt er að magngreina með eigindlegum aðferðum.19 Rannsóknir á mæði hafa bent til þess að bæði vindur og kuldi eigi það til að minnka mæðistilfnningu.20,21 Þvert á það reyndist upplifun á mæði í þessari rannsókn
meiri í göngu utandyra í vetrarveðri en innandyra. Ákefð var sambærileg í göngunum tveimur samkvæmt blóðþrýstings- og hjartsláttartíðnimælingum og skýrir því ekki meiri mæði. Einn einstaklingur skar sig úr hópi þátttakenda og greindi frá töluvert meiri mun á mæði innan- og utandyra. Ef sá einstaklingur var farlægður úr gögnunum var munurinn ekki lengur marktækur. Þýði rannsóknarinnar er lítið og því erftt að túlka þessar niðurstöður frekar.
Kynjahlutfallið í úrtakinu var ójafnt en hlutfallið endurspeglar nokkuð vel þýði einstaklinga í hjartaendurhæfngu á Reykjalundi og meðalaldur þátttakenda í rannsókninni var einnig áþekkur þýðinu.22 Í þessari rannsókn greindi enginn frá brjóstverk við göngu. Í þátttakendahópnum voru 75% á beta-blokkum, lyfum sem hægja á hjartslætti og minnka súrefnisþörf hjartans. Örvun á adrenerga viðtaka til dæmis við kulda getur bæði valdið kransæðavíkkun í gegnum beta-2 viðtaka og samdrætti í kransæðunum í gegnum alfa-1 viðtaka.
Fjöldi (N=8)
Aldur, ár 62,3 ± 6,71
Kyn
Karl 6 (75)
Kona 2 (25)
Hæð, cm 177 ± 5,10
Þyngd, kg 102 ± 20,8
Líkamsþyngdarstuðull, kg/m2 32,2 ± 5,72
Lyfafokkar
ACE 3 (37,5)
ARB 5 (62,5)
Beta-blokkar 6 (75)
Kalsíumgangalokar 2 (25)
Segavarnalyf 8 (100)
Þvagræsilyf 1 (12,5)
Kalíum 1 (12,5)
Ganga inni
Göngubretti 2 (25)
Salur 6 (75)
Ganga úti
Gönguhópur I 5 (62,5)
Gönguhópur II 2 (25,0)
Gönguhópur III 1 (12,5)
Meðaltal ± staðalfrávik eða földi (prósenta) ACE = Angíótensín breytiensím hemlar (e. angiotensin-converting-enzyme inhibitors) ARB = Angíótensín II viðtaka blokkar (e. angiotensin II receptor blockers)
á þátttakendum.
Í alvarlegri æðakölkun í kransæðum er beta-2 miðlaða æðavíkkunin skert sem gæti ýtt undir blóðþurrð í hjartavöðvanum við sympatíska virkjun.23 Zeiher og félagar sýndu fram á að beta-blokkar hafa ekki áhrif á svörun kransæða við ísvatnspróf, það er hafa ekki áhrif á æðavíkkun heilbrigðra kransæða né æðaþrengingu kransæða með æðakölkun.24 Peart og félagar sýndu fram á, í rannsókn sinni á kuldaþoli einstaklinga með brjóstverk, að kalsíumgangalokar og beta-blokkar lengdu tíma að fyrstu einkennum hjartaangar og blóðþurrðar (ST lækkun) auk þess að þau lengdu úthald þátttakenda í kulda við líkamlega áreynslu.25 Kalsíumgangalokar hafa reynst betri en beta-blokkar til að viðhalda afastagetu í kulda25 en eru álíka skilvirkir í seinkun á áreynslutengdri blóðþurrð í hjarta.18 Af þessu má álykta að beta-blokkar hafa eingöngu áhrif á súrefnisþörf hjartans en ekki á súrefnismagnið sem berst til hjartans. Enginn munur var á blóðþrýstingi milli göngu innan- og utandyra. Kuldaáreiti á líkamann virkjar sympatíska taugakerfð ásamt renín-angíótensín kerfnu sem veldur skyndilegri og langvarandi hækkun á blóðþrýstingi.6 Allir þátttakendur voru á blóðþrýstingslækkandi lyfum. Komulain og félagar sýndu fram á að notkun beta-blokka lækkar blóðþrýsting hjá einstaklingum með háþrýsting en hefur ekki áhrif á styrk blóðþrýstingssvörunar þeirra við kuldaáreiti á öllum líkamanum.26,27 Rannsókn á heilbrigðum einstaklingum sýndi að notkun viðeigandi höfuðfatnaðar minnkaði blóðþrýstingssvörun við kuldaáreiti,3 því gæti hlífðarfatnaður þátttakenda í þessari rannsókn haft áhrif á kuldatengda blóðþrýstingssvörun þar sem ekki kom fram munur á blóðþrýstingi milli mælinga innan- og utandyra.
Lofthiti, °C 2,9 ± 2,4
Vindhraði, m/sek 2,5 ± 1,2
Upplifað hitastig*, °C 0,5 ± 3,2
Varð kalt í útigöngu?
Já 0 (0)
Nei 6 (75)
Vantar svar 2 (25)
Ofankoma
Engin 4 (50)
Rigning 2 (25)
Snjókoma 2 (25)
Færð á göngustíg við útigöngu
Auður stígur 6 (75)
Hálka 1 (12,5)
Snjór og hálka 1 (12,5)
Meðaltal ± staðalfrávik eða földi (prósenta) * Úr vindkælijöfnu Osczevski og Bluestein.
Þættir eins og vindur, bleyta og rakastig, stjórna því hve mikið varmatap verður hjá einstaklingum útivið 13 Vindkælijafna Osczevski og Bluestein tekur aðeins tillit til hitastigs og vindhraða til að fá upplifað hitastig en sem dæmi má nefna þegar föt blotna aukast áhrif vindkælingar til muna13 en einn þátttakandi greindi frá því að hafa orðið blautur í útigöngunni.
Þótt mælingar haf verið teknar að vetri, földi veðurviðvarana haf komið frá Veðurstofu Íslands28 og margar lægðir gengið yfr á rannsóknartímanum29,30 varð aldrei mikil kæling við göngu utandyra. Hátt hlutfall þátttakenda tók þátt í göngu I þar sem gengið var á upphituðum stíg meðfram húsnæði Reykjalundar og því frekar skjólgott. Lofthiti fór aldrei undir frostmark við mælingar. Aðstæður til útigöngu reyndust í þessari rannsókn skjólgóðar í hvassviðri og því ekki verið að útsetja einstaklinga í endurhæfngunni fyrir mikilli vindkælingu.
Helstu styrkleikar rannsóknarinnar eru að báðar göngurnar voru framkvæmdar samdægurs sem minnkar áhrifaþætti eins og breytingu á þoli og úthaldi vegna endurhæfngar og veikinda. Auk þess var framkvæmd mælinga innan- og utandyra afar lík sem gerir mælingarnar samanburðarhæfar. Af mælingum á hjartsláttartíðni með hjartasírita ásamt mælingum á blóðþrýstingi og hjartsláttartíðni teknum á handhægum blóðþrýstingsmæli má sjá að ákefð var áþekk við göngu innan- og utandyra, styrkir það samanburð á mælingum. Helsta takmörkun rannsóknarinnar er að úrtakið var fremur lítið og minna en gert var ráð fyrir í upphaf. Því er styrkur tilgátuprófanna lítill. Trufanir í skráningu hjartasírita nokkurra þátttakenda við göngu gerði úrlestur þeirra torveldan. Ekki reyndist mögulegt að bera saman tíðni hjartsláttaróreglu við mismunandi aðstæður vegna trufana í hjartarafriti. Rannsóknin er forkönnunarrannsókn en við framkvæmd hennar kom í ljós margt sem kemur að gagni en aðlaga þyrfti nokkra aðferðafræðilega þætti fyrir frekari rannsóknir. Skráningar hjartasírita nokkurra þátttakenda urðu fyrir trufunum við göngu. Tilefni er til að kanna hvar best sé að staðsetja rafskaut á einstaklinga og hvernig klæðnaður henti best við göngu utandyra til að takmarka trufanir. Mikilvægt er að gera stærri rannsókn á áhrifum kulda á einstaklinga með kransæðasjúkdóm og þá meðal annars fylgjast með upplifun á mæði. Áhugavert væri að bæta við athugun á ánægju við þjálfun utandyra. Rannsóknin hefur mjög hagnýta þýðingu þar sem verið er að meta áhrif útsetningar í raunaðstæðum sem einstaklingar í endurhæfngu eru settir í. Því væri hægt að nýta niðurstöður rannsóknarinnar til undirstöðu í ráðleggingum og ráðgjöf til einstaklinga með stöðugan kransæðasjúkdóm. Niðurstöðurnar benda til þess að ganga utandyra í kulda í viðeigandi fatnaði sé örugg fyrir einstaklinga með stöðugan kransæðasjúkdóm varðandi hjartaog æðakerfð, hvort sem er í endurhæfngu á stofnun eða í áframhaldandi endurhæfngu heima.
Bló ðþ r ý stingur [mmHg]
Sitjandi í hvíld Standandi í hvíld Í göngu Endurheimt
(B) Hjartsláttartíðni X X X X X X X X
Sitjandi í hvíld Standandi í hvíld Í göngu Endurheimt
Inni Úti
Miðgildi (D)
Meðaltal hámarkshjartsláttartíðni úr þolpróf (B)
Mynd 2: Niðurstöður mælinga á blóðþrýstingi, díastólískum- og systólískum (A), hjartsláttartíðni mældri með blóðþrýstingsmæli (B), mat á mæði með Borg CR10 skalanum við mismunandi aðstæður inni og úti (C) og mat hvers einstaklings á mæði með Borg CR10 skalanum við göngu inni og úti (D). Blóðþrýstingur og hjartsláttartíðni voru mæld við fórar mismunandi aðstæður: sitjandi í hvíld, standandi í hvíld, í göngu og í endurheimt. Spurt var um mæði við þrjár mismunandi aðstæður: sitjandi í hvíld, í göngu og í endurheimt. Allar mælingarnar voru framkvæmdar bæði innan- og utandyra. Á B er einnig sýnt meðaltal hámarkshjartsláttartíðni úr hámarksþolpróf sem rauð lína. Mælingar teknar við göngu innandyra eru bleikar á litinn og mælingar utandyra eru bláar á litinn. X táknar meðaltal mælinga sem fylgdu normaldreifngu. Mæði var meiri utandyra en innandyra, p=0,013. Á D sést að einn einstaklingur greindi frá verulega meiri mæði úti en inni á Borg CR10 skalanum og ef sá aðili var farlægður var ekki lengur marktækur munur á mæði innan- og utandyra. Svarta punktalínan á D táknar miðgildi mats á mæði innan- og utandyra.
Sitjandi í hvíld Í göngu
Mæði (mat hvers einstakling í göngu)
Heimildir
1. Endurhæfngarstarfsemi. (ed. Heilbrigðisráðuneytið) (Stjórnarráð Íslands, 2023).
2. Guðmundur Þorgeirsson & Tómas Guðbjartsson. Kransæðabókin, (Tómas Guðbjartsson og Guðmundur Þorgeirsson, Reykjavík, 2016).
3. Ikäheimo, T.M. Cardiovascular diseases, cold exposure and exercise. Temperature (Austin) 5, 123-146 (2018).
4. Fares, A. Winter cardiovascular diseases phenomenon. N. Am. J. Med. Sci. 5, 266279 (2013).
5. Kunst, A.E., Looman, C.W. & Mackenbach, J.P. Outdoor air temperature and mortality in The Netherlands: a time-series analysis. Am. J. Epidemiol. 137, 331-341 (1993).
6. Sun, Z. Cardiovascular responses to cold exposure. Front Biosci (Elite Ed) 2, 495-503 (2010).
7. Khurana, R.K., Watabiki, S., Hebel, J.R., et al. Cold face test in the assessment of trigeminal-brainstem- vagal function in humans. Ann. Neurol. 7, 144-149 (1980).
8. Nabel, E.G., Ganz, P., Gordon, J.B., et al. Dilation of normal and constriction of atherosclerotic coronary arteries caused by the cold pressor test. Circulation 77, 43-52 (1988).
9. Zeiher, A.M., Drexler, H., Wollschlaeger, H., et al. Coronary vasomotion in response to sympathetic stimulation in humans: importance of the functional integrity of the endothelium. J. Am. Coll. Cardiol. 14, 11811190 (1989).
10. Manou-Stathopoulou, V., Goodwin, C.D., Patterson, T., et al. The effects of cold and exercise on the cardiovascular system. Heart 101, 808-820 (2015).
11. Borg, G. Psychophysical scaling with applications in physical work and the perception of exertion. Scand. J. Work. Environ. Health 16 Suppl 1, 55-58 (1990).
12. Osczevski, R. & Bluestein, M. THE NEW WIND CHILL EQUIVALENT TEMPERATURE CHART. Bulletin of the American Meteorological Society 86, 1453-1458 (2005).
13. Trausti Jónsson. Vindkæling. (Veðurstofa Íslands, 2008).
14. Marchant, B., Donaldson, G., Mridha, K., et al. Mechanisms of cold intolerances in patients with angina. J. Am. Coll. Cardiol. 23, 630-636 (1994).
15. Lassvik, C. & Areskog, N.H. Angina pectoris during inhalation of cold air. Reactions to exercise. Br. Heart J. 43, 661-667 (1980).
16. Rosengren, A., Wennerblom, B., Bjurö, T., et al. Effects of cold on ST amplitudes and blood pressure during exercise in angina pectoris. Eur. Heart J. 9, 1074-1080 (1988).
17. Brown, C.F. & Oldrigde, N.B. Exerciseinduced angina in the cold. Med. Sci. Sports Exerc. 17, 607-612 (1985).
18. Juneau, M., Johnstone, M., Dempsey, E., et al. Exercise-induced myocardial ischemia in a cold environment. Effect of antianginal medications. Circulation 79, 1015-1020 (1989).
19. Dyspnea. Mechanisms, assessment, and management: a consensus statement. American Thoracic Society. Am. J. Respir. Crit. Care Med. 159, 321-340 (1999).
20. Schwartzstein, R.M., Lahive, K., Pope, A., et al. Cold facial stimulation reduces breathlessness induced in normal subjects. Am. Rev. Respir. Dis. 136, 58-61 (1987).
21. Luckett, T., Phillips, J., Johnson, M.J., et al. Contributions of a hand-held fan to selfmanagement of chronic breathlessness. Eur. Respir. J. 50, 1700262 (2017).
22. Kristjánsson, K., Jónasson, M.R., Jónsdóttir, S., et al. [Effects of rehabilitation on functional capacity, obesity and health behavior, among cardiac patients with DM2]. Laeknabladid 101, 405-410 (2015).
23. Barbato, E., Piscione, F., Bartunek, J., et al. Role of β2 Adrenergic Receptors in Human Atherosclerotic Coronary Arteries. Circulation 111, 288-294 (2005).
24. Zeiher, A.M., Drexler, H., Wollschlaeger, H., et al. Coronary vasomotion in response to sympathetic stimulation in humans: Importance of the functional integrity of the endothelium. J. Am. Coll. Cardiol. 14, 11811190 (1989).
25. Peart, I., Bullock, R.E., Albers, C., et al. Cold intolerance in patients with angina pectoris: effect of nifedipine and propranolol. Br. Heart J. 61, 521-528 (1989).
26. Komulainen, S., Tähtinen, T., Rintamäki, H., et al. Blood pressure responses to whole-body cold exposure: effect of carvedilol. Eur. J. Clin. Pharmacol. 56, 637-642 (2000).
27. Komulainen, S., Rintamäki, H., Virokannas, H., et al. Blood pressure responses to wholebody cold exposure: effect of metoprolol. J. Hum. Hypertens. 18, 905-906 (2004).
28. Metföldi viðvarana í febrúar. (Veðurstofa Íslands, 2022).
29. Tíðarfar í febrúar 2022. (Veðurstofa Íslands, 2022).
30. Tíðarfar í mars 2022. (Veðurstofa Íslands, 2022).

Inngangur
Við rekjum sjúkrasögu 55 ára manns sem leitaði á bráðamóttöku vegna höfuðverks og svima. Bæði eru algeng einkenni sem hafa margar og misalvarlegar orsakir og undirstrikar tilfellið mikilvægi þess að muna eftir óalgengari mismunagreiningum. Við gefum undirliggjandi orsök því ekki strax upp og hvetjum lesendur til að velta mismunagreiningum fyrir sér við lestur tilfellisins. Eftir rakningu tilfellis verður svo fræðileg umföllun um undirliggjandi orsök.
Sjúkratilfelli
55 ára maður sem hafði haft vægan höfuðverk í þrjá daga en vaknaði einkennalaus þennan dag og keyrði til vinnu. Um kl. 8:30 snarversnaði höfuðverkurinn, hann fékk svima, móðusjón, kaldsvitnaði og hneig niður. Hringt var í neyðarlínu og var hann futtur á bráðamóttöku með sjúkrabíl kl. 8:51. Við fyrsta mat á bráðamóttöku leið honum ágætlega. Hann neitaði hjartsláttarónotum, brjóstverk, mæði og hita. Hann sagði svimann ekki versna við hreyfngar og taldi sig ekki hafa misst meðvitund.
Fyrra heilsufar
• Háþrýstingur
• Kæfsvefn
• Blóðfturöskun
Lyf
Enalapríl 5mg, einu sinni á dag.
Ofnæmi
Engin þekkt.
Venjur
Hefur aldrei reykt né drukkið áfengi.
Fjölskyldusaga
Móðir var með meðfæddan hjartagalla. Faðir fékk hjartaáfall um sextugt. Bróðir greindist með kransæðasjúkdóm um 55 ára aldur. Almennt mikil saga um heilablóðföll og blóðþurrðarslög í föðurfölskyldu.
Urður Helga Gísladóttir 5. árs læknanemi 2024-2025
Fyrsta skoðun á bráðamóttöku
Lífsmörk: Blóðþrýstingur 147/97 mmHg, púls 66 slög/mínútu, hiti 36,3°C, öndunartíðni 16/mínútu og súrefnismettun 98%.
• Almennt: Ekki bráðveikur að sjá. Aukinn svimi við að setjast upp við skoðun.
• Hjarta: Heyrðust reglulegir S1 og S2 hjartatónar með aukaslögum. Lungu: Hrein hlustun. Kviður: Mjúkur og eymslalaus.
Rannsóknir
• Hjartalínurit (EKG) sýndi sínustakt 66 slög/ mínútu með áberandi T-bylgjum í V2-V4, sem svipaði til fyrri rita.
• Blóðprufur almennt innan marka, þar á meðal TnT (6) og glúkósi (8).
Gangur í legu á bráðamóttöku
Stefnt var að mati HNE lækna til uppvinnslu á svima. Skyndileg versnun varð klukkustund eftir komu, um kl. 9:50. Þá fékk hann aukinn hringsvima, var meðtekinn og kastaði upp glærum vökva. Við endurmat læknis sást augntin (nystagmus) þegar hann horfði til vinstri sem breyttist stuttu síðar í sjálfsprottið (spontant) augntin þegar hann horfði
Enrico Bernardo Arkink
Sérfræðingur í röntgenlækningum og lektor við Háskóla Íslands
Hjalti Már Þórisson
Sérfræðingur í inngripsröntgenlækningum
Marianne Elisabeth Klinke
Hjúkrunarfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands
Björn Logi Þórarinsson
Sérfræðingur í taugalækningum
beint fram. Ekki var greinanleg skyn- eða máttminnkun í útlimum. Skyndilega, um kl. 9:53, fór hann í hægatakt (bradycardia) 34-36 slög/mínútu og var því gefð samtals 1 mg af atrópíni í æð með góðum árangri. Eftir futning á akútstæði, nokkrum mínútum síðar, var hann orðinn þvoglumæltur og því var pípt brátt slag kl. 10:00. Ekki var skráð nákvæmari saga og skoðun í bráðamóttökuskrá. Við skoðun taugalækna kl. 10:05 var hann með áberandi kraftminnkun í hægri útlimum, skyntap í hægri hlið, meðvitundarskertur, þvoglumæltur og með talerfðleika sem gáfu samtals 10 stig á NIHSS kvarða til að meta slageinkenni (mynd 1a). Hann virtist auk þess ljósfælinn og var afar slappur að sjá.
Myndgreining Bráð tölvusneiðmynd (TS) af höfði og hálsslagæðum með skuggaefni kl. 10:17 sýndi lokun á vinstri hryggslagæð (vertebral artery) og vinstri aftari neðri hnykilsslagæð (posterior inferior cerebellar artery, PICA). Talið var mögulegt að lokun væri vegna fysjunar vegna staðsetningar. Ekki voru merki um blóðþurrðarbreytingar eða blæðingu (mynd 2a-2c).

Mynd 2: Myndir af tveimur tölvusneiðmyndrannsóknum, kl. 10:07 (A-C) og kl. 12:26 (D-F). Áslægar (axial) sneiðar af hryggslagæðum (A og D), krúnu (coronal) sneiðar af botnslagæð (B og E) og enduruppbyggingarmyndir í þrívídd af hryggslagæðum og botnslagæð. Eðlileg fylling sést á báðum rannsóknum í hægri hryggslagæð (hvít ör, A, C, D og F). Það er lokun í vinstri hryggslagæð við fyrri rannsókn (svört ör, A og C) en ekki við seinni rannsókn (svört ör, D og F). Eðlileg fylling sést í farlægari hluta botnslagæðar (hvítur örvaroddur, B og C) og nærlægri (proximal) hægri aftari hjarnaslagæð (PCA) (stjörnumerki, B og C) á fyrri rannsókn, en ekki á seinni rannsókn (E og F).
Ný vinnugreining
Nú var tilkomin sterk vissa um að sjúklingur væri með brátt blóðþurrðarslag á grunni bráðrar lokunar á vinstri hryggslagæð og vinstri PICA. Einungis tvær klukkustundir voru frá upphaf einkenna og slagið því innan tímamarka fyrir segaleysandi meðferð án þess að þörf væri á viðbótarmyndrannsóknum eins og TS gegnumfæðirannsókn (CT perfusion) eða segulómun til meðferðarákvörðunar.
Meðferð: Segaleysandi meðferð Sjúklingur var metinn með skýra ábendingu og engar frábendingar fyrir segaleysandi meðferð. Sjúklingur fékk því segaleysandi meðferð í bláæð (intravenous thrombolysis, IVT) með alteplasa (recombinant tissue plasminogen activator, rtPA) kl. 10:20 inni á tölvusneiðmyndastofu. Tími frá versnun að gjöf var 27 mínútur og frá pípi að gjöf 20 mínútur en tími frá komu að gjöf var 89 mínútur. Ekki var talin ábending fyrir segabrottnámi (mechanical thrombectomy, MT) vegna staðsetningar sega í hryggslagæð.
Vöktun eftir segaleysandi meðferð Nær strax, eða tveimur mínútum, eftir segaleysandi meðferð gekk hægri helftarlömun (hemiparesis) til baka á tölvusneiðmyndastofu og sjúklingur var futtur á taugalækningadeild til innlagnar og vöktunar kl. 10:44. Við eftirlit á taugalækningadeild var fylgt klínísku verklagi um vöktun eftir segaleysandi meðferð (mynd 3). Fyrst við komu á deild höfðu einkenni sjúklings gengið nær alveg til baka og var sjúklingur með 0 stig á NIHSS. Nær tveimur tímum eftir gjöf segaleysandi meðferðar, kl. 12:15, versnaði sjúklingi skyndilega við mat hjúkrunarfræðings. Tilkomin var bráð og mikil meðvitundarskerðing, ljósop (pupils) voru eðlileg en skoðun sýndi ósamsíða augnstöðu og augnhreyflömun sem ekki var hægt að yfrvinna við höfuðhreyfngar. Sjúklingur fylgdi nær engum fyrirmælum við taugaskoðun og var kominn með 26 stig á NIHSS (mynd 1b).
Ný myndgreining
Framkvæmd var bráð myndgreining að nýju. TS af höfði sýndi óbreytt ástand en TS æðamynd (angiography) tekin kl. 12:26 sýndi nýtilkomna lokun á farlægri (distal) botnslagæð (basilar artery) og hægri aftari hjarnaslagæð (posterior cerebral artery, PCA) sem ekki hafði sést við fyrri myndgreiningu (mynd 2d-2f).
Ný vinnugreining
Bráð klínísk versnun var talin á grunni skyndilegrar blóðþurrðar í miðheila og ofanverðri brú (pons) á grunni skyndilegs blóðsegareks (thromboembolism) til botnslagæðar frá vinstri hryggslagæð Haft var samband við inngripsröntgenlækna og var sjúklingur tafarlaust tekinn til segabrottnáms.
Tíðni lífsmarkamælinga og taugaskoðun
Tíðni mælinga:
• Á 15 mín. fresti í 2 klst. frá upphaf segaleysandi
meðferðar.
• Á 30 mín. fresti í 6 klst.
• Á klst. fresti í 16 klst.
Eftir það er eftirliti haldið áfram í ferlinu „Blóðþurrðarslag”
Ef BÞ lækkandi meðferð er veitt í æð skal mæla BÞ og púls á 15 mín fresti á meðan árangur er metinn
Mynd 3: Meðferðarknippi taugalækningadeildar.
Rauð flögg – hafa strax samband við lækni
• Blæðingar eða grunur um heilablæðingu
• Meðvitund: GCS ≤10 eða fall um >2 á GCS innan við sólarhring
• Versnun um ≥4 á sólarhring við NIHSS stigun
• Skyndilegur höfuðverkur, ógleði og/eða uppköst
• Vaxandi rugl, eirðarleysi og/eða óróleiki
• Flog
• Ef þér „líst illa á” sjúkling
• Einkenni Cushing‘s viðbragðs (hækkaður blóðþrýstingur, óregluleg öndun, lækkaður púls)

Mynd 4: Myndir teknar við segabrottnám. Myndir A-C eru teknar í krúnusniði (frontal/coronal plane) en mynd D er tekin frá hlið, eða í þykktarsniði (sagittal plane).
a) Inndæling í vinstri hryggslagæð sýnir algjöra lokun á æðinni sem einnig sást á TS. Engin fylling sést í botnslagæð á þessari inndælingu en segarek (thromboembolism) sást í toppi botnslagæðar á seinni TS og botnslagæð fylltist frá hægri hryggslagæð
b) Inndæling í vinstri hryggslagæð eftir segabrottnám með sogi (aspiration) úr farlægari hluta botnslagæðar. Nú sést eðlileg fylling og eðlilegt fæði í botnslagæð og greinum hennar. Segarek sem sást á TS hefur verið farlægt.
c) Inndæling frá miðri vinstri hryggslagæð eftir segabrottnám sýnir þrengingu (stenosis) í vinstri hryggslagæð þar sem áður var lokun. Eðlilegt fæði er nú komið í æðina.
d) Inndæling í vinstri hryggslagæð sýnir eðlilega fyllingu á greinum í aftari blóðveitu. Ekkert farlægt segarek til staðar eftir segabrottnám.
1a. Meðvitundarstig
1b. Áttun
Spyrja sjúkling um mánuð og aldur.
Ekki gefa vísbendingar, fyrsta svar gildir.
1c. Skilningur
Biðja um að opna/loka augum og kreppa hnefa.
2. Augnhreyfngar til hliðanna
Skoða augnstöðu sjúklings í hvíld. Prófa augnhreyfngar til hægri og vinstri. Framkvæma Doll’s eye próf ef þörf: Hreyfa höfuð til hliðanna og hafa augun á miðpunkti.
3. Sjónsvið
Halda ólíkt mörgum fngrum í mismunandi fórðungum og spyrja sjúkling. Ef ekki er hægt, þá prófa með hótandi hreyfngu að augum og leita eftir viðbragð
4. Andlitshreyfngar
Skoða munnvik, bros og ennislínur. Ef sjúklingur er meðvitundarskertur er hægt að nota sársaukaáreiti.
5. Kraftur í handleggjum
Lyfta handlegg með lófa niður í 45° í liggjandi stöðu (90° í sitjandi stöðu) og halda kyrrum uppi í 10 sekúndur. Prófa betri handlegg fyrst! Ef það vantar útlim: 0 stig. Gefa 8 stig ef sjúklingur er meðvitundarlaus.
6. Kraftur í fótleggjum
Lyfta fótlegg í 30° og biðja að halda uppi í 5 sekúndur. Prófa betri fótlegg fyrst! Ef það vantar útlim: 0 stig. Gefa 8 stig ef sjúklingur er meðvitundarlaus.
7. Óregluhreyfng í útlimum (ataxia)
Prófa með fngur-nef & hæl-sköfungspróf. Ef skertur eða enginn kraftur er í útlim þá gefast 0 stig.
8. Húðskyn (verkir)
Prófa með nál ef samvinna.
Prófa með sársaukaáreiti ef samvinna fæst ekki.
9. Málgeta
Biðja sjúkling um að lýsa mynd, nefna hluti og lesa setningar.
10. Þvoglumæli
Biðja sjúkling um að lesa orð af lista, ekki segja hvers vegna! Intúberaðir fá 0 stig.
11. Bæling og gaumstol
Voru merki um gaumstol við sjón eða skynpróf?
Biðja sjúkling um að loka augum, koma við hægri (eða vinstri) hlið hans og spyrja um skynjunina. Í kjölfarið snerta báðar hliðar.
Lítið slag: 1-4 stig
Miðlungs slag: 5-15 stig
0. Vakandi og svarar greiðlega
1. Ekki vel vakandi (sljór) en svarar og fylgir fyrirmælum eftir ávarp eða lítið áreiti
2. Meðvitundarlítill (mjög sljór), þarf endurtekin eða sársaukafull áreiti til að ná sambandi
3. Meðvitundarlaus (coma), ekki næst samband, einungis ósjálfráð hreyfviðbrögð við áreiti
0. Svarar báðum spurningum rétt
1. Svarar annarri spurningunni rétt. Gefa einnig 1 stig ef sjúklingur er barkaþræddur, þvoglumæltur eða önnurtungumálahindrun kemur í veg fyrir rétt svar
2. Svarar hvorugri spurningunni rétt. Gefa einnig 2 stig ef það er málstol/meðvitundarleysi sem hindrar svar
0. Framkvæmir bæði rétt
1. Framkvæmir annað rétt
2. Framkvæmir hvorugt rétt
0. Eðlilegar hreyfngar til beggja hliða
1. Augnhreyflömun að hluta (partial gaze palsy) – hægt er að yfrvinna ef beðið er um að líta til gagnstæðrar áttar eða höfði er snúið. Periferar augnvöðvalamanir
2. Þvinguð samstillt augu til annarrar hliðar (total gaze paresis) – ekki hægt að yfrvinna með beiðni til sjúklings eða með því að snúa höfði
0. Eðlilegt
1. Sjónsviðsskerðing að hluta – t.d. í efri eða neðri fórðungi
2. Helftarsjónsviðsskerðing
3. Tvíhliða sjónsviðsskerðing – blinda eða heilabarkablinda
0. Eðlilegar
1. Væg andlitslömun – vararskora útslétt, bros ósamhverft
2. Miðlungs andlitslömun – t.d. mikil eða algjör lömun í neðri hluta andlits öðru megin
3. Algjör andlitslömun – t.d. mikil eða algjör lömun í bæði efri og neðri hluta andlits öðru megin
0. Heldur uppi í 10 sekúndur – handleggur sígur ekkert niður
1. Handleggur sígur innan 10 sekúndna en ekki alveg niður á bekk eða rúm
2. Handleggur sígur innan 10 sekúndna alla leið niður á bekk eða rúm
3. Handleggur fellur strax niður á bekk eða rúm, lyftist ekkert gegn þyngdarafi en getur hreyfst lítillega
4. Engin sýnileg hreyfng í handlegg
0. Heldur uppi í 5 sekúndur
1. Fótleggur sígur innan 5 sekúndna en dettur ekki á bekk eða rúm
2. Fótleggur sígur innan 5 sekúndna á rúm eða bekk
3. Fótleggur hreyfst en lyftist ekki upp af bekk
4. Engin hreyfng í fótlegg
0. Engin óregluhreyfng
1. Óregluhreyfng í einum útlim
2. Óregluhreyfng í tveimur útlimum
0. Ekkert skyntap
1. Vægt til miðlungs skyntap – skynjar stunguna en hún er minni öðrum megin
2. Mikið eða algjört skyntap – skynjar ekki stungurnar í útlimum öðrum megin. Sjúklingur er meðvitundarlaus
0. Eðlilegt talgeta
1. Vægt til miðlungs málstol, skert fæði en hægt er að skilja sjúkling
2. Mikið eða slæmt málstol, mjög brotakennt eða lítið tal, ekki hægt að skilja sjúkling
3. Algjört málstol, kemur ekki upp neinu orði (mutism), enginn málskilningur. Sjúklingur er meðvitundarlaus
0. Eðlilegt tal
1. Væg til miðlungs þvoglumæli – hægt að skilja sjúkling en sum orð eru óskýr 2. Mikið þvoglumæi – ekki hægt að skilja sjúkling vegna þess hvað tal er óskýrt eða sjúklingur getur ekki myndað tal. Sjúklingur er meðvitundarlaus
0. Ekki til staðar
1. Bæling og gaumstol í einu prófuðu skynsviði: Sjónsvið, húðskyn, heyrn, umhverf (spatialt) ef prófað er með áreiti beggja vegna
2. Mikið helftargaumstol og bæling í feiri en einu af prófuðum fyrrnefndum skynsviðum ef prófað er með áreiti beggja vegna. Gefur umhverf gaum einungis til annarrar hliðar eða þekkir ekki hönd sína. Sjúklingur er meðvitundarlaus
Miðlungs-stórt slag: 16-20 stig
Stórt slag: 21-42 stig
5a Vinstri
5b Hægri
6a Vinstri
6b Hægri
Heildarstig á NIHSS skala: _____
Mynd 1: Myndin sýnir stigun sjúklings á National Institute of Health Stroke Scale (NIHSS). a) Við versnun á bráðamóttöku er sjúklingur með 10 stig.
1a. Meðvitundarstig
1b. Áttun
Spyrja sjúkling um mánuð og aldur. Ekki gefa vísbendingar, fyrsta svar gildir.
1c. Skilningur
Biðja um að opna/loka augum og kreppa hnefa.
2. Augnhreyfngar til hliðanna
Skoða augnstöðu sjúklings í hvíld. Prófa augnhreyfngar til hægri og vinstri. Framkvæma Doll’s eye próf ef þörf: Hreyfa höfuð til hliðanna og hafa augun á miðpunkti.
3. Sjónsvið
Halda ólíkt mörgum fngrum í mismunandi fórðungum og spyrja sjúkling. Ef ekki er hægt, þá prófa með hótandi hreyfngu að augum og leita eftir viðbragð
4. Andlitshreyfngar Skoða munnvik, bros og ennislínur. Ef sjúklingur er meðvitundarskertur er hægt að nota sársaukaáreiti.
5. Kraftur í handleggjum Lyfta handlegg með lófa niður í 45° í liggjandi stöðu (90° í sitjandi stöðu) og halda kyrrum uppi í 10 sekúndur. Prófa betri handlegg fyrst! Ef það vantar útlim: 0 stig. Gefa 8 stig ef sjúklingur er meðvitundarlaus.
6. Kraftur í fótleggjum Lyfta fótlegg í 30° og biðja að halda uppi í 5 sekúndur. Prófa betri fótlegg fyrst! Ef það vantar útlim: 0 stig. Gefa 8 stig ef sjúklingur er meðvitundarlaus.
7. Óregluhreyfng í útlimum (ataxia)
Prófa með fngur-nef & hæl-sköfungspróf. Ef skertur eða enginn kraftur er í útlim þá gefast 0 stig.
8. Húðskyn (verkir)
Prófa með nál ef samvinna. Prófa með sársaukaáreiti ef samvinna fæst ekki.
9. Málgeta
Biðja sjúkling um að lýsa mynd, nefna hluti og lesa setningar.
10. Þvoglumæli
Biðja sjúkling um að lesa orð af lista, ekki segja hvers vegna! Intúberaðir fá 0 stig.
11. Bæling og gaumstol
Voru merki um gaumstol við sjón eða skynpróf?
Biðja sjúkling um að loka augum, koma við hægri (eða vinstri) hlið hans og spyrja um skynjunina. Í kjölfarið snerta báðar hliðar.
Lítið slag: 1-4 stig
Miðlungs slag: 5-15 stig
0. Vakandi og svarar greiðlega
1. Ekki vel vakandi (sljór) en svarar og fylgir fyrirmælum eftir ávarp eða lítið áreiti
2. Meðvitundarlítill (mjög sljór), þarf endurtekin eða sársaukafull áreiti til að ná sambandi
3. Meðvitundarlaus (coma), ekki næst samband, einungis ósjálfráð hreyfviðbrögð við áreiti
0. Svarar báðum spurningum rétt
1. Svarar annarri spurningunni rétt. Gefa einnig 1 stig ef sjúklingur er barkaþræddur, þvoglumæltur eða önnurtungumálahindrun kemur í veg fyrir rétt svar
2. Svarar hvorugri spurningunni rétt. Gefa einnig 2 stig ef það er málstol/meðvitundarleysi sem hindrar svar
0. Framkvæmir bæði rétt
1. Framkvæmir annað rétt
2. Framkvæmir hvorugt rétt
0. Eðlilegar hreyfngar til beggja hliða
1. Augnhreyflömun að hluta (partial gaze palsy) – hægt er að yfrvinna ef beðið er um að líta til gagnstæðrar áttar eða höfði er snúið. Periferar augnvöðvalamanir
2. Þvinguð samstillt augu til annarrar hliðar (total gaze paresis) – ekki hægt að yfrvinna með beiðni til sjúklings eða með því að snúa höfði
0. Eðlilegt
1. Sjónsviðsskerðing að hluta – t.d. í efri eða neðri fórðungi
2. Helftarsjónsviðsskerðing
3. Tvíhliða sjónsviðsskerðing – blinda eða heilabarkablinda
0. Eðlilegar
1. Væg andlitslömun – vararskora útslétt, bros ósamhverft
2. Miðlungs andlitslömun – t.d. mikil eða algjör lömun í neðri hluta andlits öðru megin
3. Algjör andlitslömun – t.d. mikil eða algjör lömun í bæði efri og neðri hluta andlits öðru megin
0. Heldur uppi í 10 sekúndur – handleggur sígur ekkert niður
1. Handleggur sígur innan 10 sekúndna en ekki alveg niður á bekk eða rúm
2. Handleggur sígur innan 10 sekúndna alla leið niður á bekk eða rúm
3. Handleggur fellur strax niður á bekk eða rúm, lyftist ekkert gegn þyngdarafi en getur hreyfst lítillega
4. Engin sýnileg hreyfng í handlegg
0. Heldur uppi í 5 sekúndur
1. Fótleggur sígur innan 5 sekúndna en dettur ekki á bekk eða rúm
2. Fótleggur sígur innan 5 sekúndna á rúm eða bekk
3. Fótleggur hreyfst en lyftist ekki upp af bekk
4. Engin hreyfng í fótlegg
0. Engin óregluhreyfng
1. Óregluhreyfng í einum útlim
2. Óregluhreyfng í tveimur útlimum
0. Ekkert skyntap
1. Vægt til miðlungs skyntap – skynjar stunguna en hún er minni öðrum megin
2. Mikið eða algjört skyntap – skynjar ekki stungurnar í útlimum öðrum megin. Sjúklingur er meðvitundarlaus
0. Eðlilegt talgeta
1. Vægt til miðlungs málstol, skert fæði en hægt er að skilja sjúkling
2. Mikið eða slæmt málstol, mjög brotakennt eða lítið tal, ekki hægt að skilja sjúkling
3. Algjört málstol, kemur ekki upp neinu orði (mutism), enginn málskilningur.
Sjúklingur er meðvitundarlaus
0. Eðlilegt tal
1. Væg til miðlungs þvoglumæli – hægt að skilja sjúkling en sum orð eru óskýr 2. Mikið þvoglumæli – ekki hægt að skilja sjúkling vegna þess hvað tal er óskýrt eða sjúklingur getur ekki myndað tal. Sjúklingur er meðvitundarlaus
0. Ekki til staðar
1. Bæling og gaumstol í einu prófuðu skynsviði: Sjónsvið, húðskyn, heyrn, umhverf (spatialt) ef prófað er með áreiti beggja vegna
2. Mikið helftargaumstol og bæling í feiri en einu af prófuðum fyrrnefndum skynsviðum ef prófað er með áreiti beggja vegna. Gefur umhverf gaum einungis til annarrar hliðar eða þekkir ekki hönd sína. Sjúklingur er meðvitundarlaus
Miðlungs-stórt slag: 16-20 stig
Stórt slag: 21-42 stig
b) Við versnun á taugalækningadeild er sjúklingur með 26 stig.
6a Vinstri
Heildarstig á NIHSS skala: _____
Tími Tími frá komu (klst:mín)
Hvað gerðist?
Staðsetning
08:30 Upphaf einkenna. Í vinnu
08:51 0 Kom á bráðamóttöku með sjúkrabíl. BMT
09:53 1:02 Fór í hægatakt 34–36 slög/mínútu og fékk atrópín 1 mg í æð með góðum árangri.
10:00 1:09 Pípt brátt slag.
10:05 1:14 Mat taugalækna, fékk 10 stig á NIHSS.
10:17 1:26 TS sýndi lokun í vinstri hryggslagæð og vinstri PICA. TS stofa
10:20 1:29 Fékk IVT á TS stofu. Tími frá upphaf einkenna til nálar ≈ 110 mín Tími frá dyrum að nál = 89 mín
10:44 1:53 Var futtur á taugalækningadeild. Einkenni gengin nær til baka, fékk 0–1 stig á NIHSS. Slageining taugalækningadeildar
11:08 2:17 Endurtekinn hægataktur og fékk aftur atrópín 0,5 mg í æð
12:15 3:24 Skyndileg versnun, fékk 26 stig á NIHSS. TS stofa
12:26 3:35 TS sýndi nýja lokun í farlægari botnslagæð og hægri PCA. Æðaþræðingarstofa
12:55 4:04 Upphaf segabrottnáms.
13:11 4:20 Enduropnun æðar staðfest.
18:30 9:39 Kom frá vöknun, fékk 0 stig á NIHSS. Slageining taugalækningadeildar
Tafa 1: Tímalína dagsins sem sjúklingur leitaði á Landspítala.
Meðferð: Segabrottnám Sjúklingur var tekinn til bráðrar slagæðamyndatöku. Inndæling skuggaefnis í farlægari hluta vinstri hryggslagæðar sýndi lokun á æðinni. Engin fylling sást í botnslagæð en TS æðamynd hafði sýnt stutta lokun í farlægum þriðjungi botnslagæðar. Beitt var ADAPT tækni (A Direct Aspiration, First-Pass Technique) við segabrottnám og notaður til þess grófur útsogsleggur (aspiration catheter). Eftir nokkuð sog (aspiration) í farlægari hluta hryggslagæðar sást fæði um æðina og fylling í PICA. Enn var lokun á hryggslagæð handan þrengingar. Það tókst að þræða í gegnum þrenginguna og sogað var í vinstri hryggslagæð handan þrengingar og upp í botnslagæð Eftir það sást eðlileg fylling í botnslagæð og greinum hennar og ekkert farlægt segarek greindist. Einnig sást greitt fæði í allri vinstri hryggslagæð og engin teikn um fysjun. Staðbundin þrenging sást sem var metin meðalsvæsin (um 50%) rétt við þann stað þar sem lokunin hafði verið á farhluta vinstri hryggjarslagæðar. Mjög góð enduropnun náðist (mTICI 3) (mynd 4). Segabrottnám hófst kl. 12:55 og enduropnun var staðfest kl. 13:11. Tími frá versnun sem varð kl. 12:15 að upphaf segabrottnáms var 40 mínútur og að enduropnun 56 mínútur, aðgerðartími var 16 mínútur. Eftir æðaþræðingu var sjúklingur futtur á vöknun og svo á taugalækningadeild.

Mynd 5: Myndgreiningar af litla heila í áslægu plani sýna teikn um drep í kjölfar blóðþurrðarslags. a) TS af höfði án skuggaefnis sýnir lítil drep í vinstri bleðli litla heila daginn eftir slagið b) Segulómun af höfði (T2-vigtuð) einum og hálfum mánuði eftir slagið sýnir vefaskaða í litla heila vinstra megin.

Mynd 6: Myndir af TS sem var tekin tveimur og hálfum mánuði eftir slagið. Sýnd er a) áslæg sneið af hryggslagæðum, b) krúnusneið af botnslagæð og c) þrívíð enduruppbyggingarmynd af hryggslagæðum og botnslagæð. Eðlileg fylling sést nú í farlægri vinstri hryggslagæð (svört ör), í botnslagæð (hvítur örvaroddur) og í nærlægri hægri aftari hjarnaslagæð (PCA) (stjörnumerki).
Vöktun eftir segabrottnám
Við komu á taugalækningadeild frá vöknun um kl. 18:30, rúmlega fmm klukkustundum eftir segabrottnám, voru lífsmörk innan marka, sjúklingur var með 0 stig á NIHSS og engir fylgikvillar sýnilegir í nára. Hafð var staðlað hjúkrunareftirlit á sama hátt og eftir segaleysandi meðferð, auk markvissar vöktunar á stungustað (mynd 3). Sjá má tímalínu dagsins sem sjúklingur leitaði á Landspítala í töfu I.
Gangur í legu á taugalækningadeild
Daginn eftir var klínískt ástand sjúklings óbreytt og fékk hann 0 stig á NIHSS. TS af höfði sýndi lítil drep í vinstri bleðli litla heila/hnykkli (cerebellum) og ekki var að sjá teikn um blæðingu eða önnur drepsvæði (mynd 5a). Hjartaómun yfr brjóstvegg sýndi væga þykknun á skilvegg en var að öðru leyti eðlileg. 48 klukkustunda hjartarit (Holter) sýndi enga markverða takttrufun. Talið var að orsök staðbundins sega og segareks frá hryggslagæð væri óstöðug æðakölkun og því metnar töluverðar líkur á frekari segamyndun. Því var hafn meðferð með tvöfaldri blóðföguhemjandi meðferð með Hjartamagnýli 75 mg daglega (hleðsluskammtur 300 mg) og klópídógreli 75 mg daglega í 3 vikur (hleðsluskammur 300 mg) auk atorvastatíns 80 mg daglega. Sjúklingur var innlagður á taugalækningadeild í þrjá daga og útskrifaðist heim við góða líðan.
Afdrif
Við endurkomu mánuði síðar var sjúklingur með skert úthald en neitaði öðrum eftirköstum slags. Hann var á blóðföguhemjandi meðferð með Hjartamagnýli, ágengri statínmeðferð (markmið: LDL kólesteról < 1,4) og blóðþrýstingsmeðferð (markmið: BÞ < 130/80) og gekk vel. Honum var vísað til hjartalæknis til að útiloka æðakölkun í kransæðum. TS af kransæðum sýndi svo einungis örlitla ómarktæka kölkun. Hann fór í segulómun af heila einum og hálfum mánuði eftir slagið sem sýndi vefaskaða í litla heila vinstra megin (mynd 5b). TS æðamynd af hálsslagæðum tveimur og hálfum mánuði eftir slagið sýndi skuggaefnisfyllingu í toppi botnslagæðar, í hægri aftari hjarnaslagæð (PCA) og farlægri vinstri hryggslagæð
Fræðileg umræða Slag er næstalgengasta dánarorsök á heimsvísu og þriðja algengasta orsök dauða og fötlunar samanlagt, og er því mjög alvarlegur sjúkdómur. Þrátt fyrir að aldursstaðlaðar tíðnitölur haf farið lækkandi heldur földi tilfella slags og einstaklinga sem lifa við eftirköst slaga áfram að aukast, sem veldur vaxandi álagi á heilbrigðiskerf.1, 2 Á árunum 1990 til 2019 jókst byrði slagsjúkdóma töluvert, bæði nýgengi og algengi hækkaði mikið (70-85%) en dauðsföllum og glötuðum góðum æviárum (disability-adjusted life years, DALYs) vegna slags fölgaði einnig (32-43%).3 Talið er að nýgengi aukist enn frekar á næstu áratugum, meðal annars vegna hækkandi aldurs þjóða og aukinnar tíðni lífstílssjúkdóma eins og sykursýki og offtu.4
Skilgreining slags samkvæmt bandarísku hjarta- og æðasamtökunum (American Heart Association, AHA) og bandarísku slagsamtökunum (American Stroke Association, ASA) er breið en slag leiðir oftast til skyndilegrar staðbundinnar trufunar í miðtaugakerf, sem varir í 24 klukkustundir eða meira eða leiðir til dauða, en getur einnig náð yfr vefaskaða sem er klínískt þögull.5 Brátt blóðþurrðarslag (acute ischemic stroke) er algengasta ástæða klínísks slags, bæði hjá yngra og eldra fólki.6 Á hverju ári fá um 795.000 manns fyrsta eða endurtekið slag í Bandaríkjunum og eru 87% þeirra slaga vegna blóðþurrðar.7 Árið 2019 voru 62,4% allra fyrstu slaga á heimsvísu vegna blóðþurrðar.3 Frá október 2007 til september 2008, á 12 mánuðum, urðu 410 tilfelli slags á Íslandi og voru 81% með blóðþurrðarslag, 9% með heilablæðingu, 7% með innanskúmsblæðingu og 3% með óþekkta orsök slags.8 Árið 2022 voru 513 tilfelli bráðs slags til meðferðar á sjúkrahúsum á Íslandi og voru 78,6% blóðþurrðarslög, 16,4% heilablæðingar og 5% innanskúmsblæðingar samkvæmt óbirtum tölum úr ICESTROKE gagnasafninu.9 Þannig eru um 80% af klínískum slögum á Íslandi blóðþurrðarslög, 15% heilablæðingar og 5% innanskúmsblæðingar. Skammvinn heilablóðþurrð (transient ischemic attack, TIA) er skilgreint sem skamvinn trufun í taugakerf sem orsakast af staðbundinni blóðþurrð í heila, mænu eða sjónhimnu, án þess að valda bráðu drepi.5 Þannig er TIA skilgreint eftir vef en ekki tíma og munurinn á TIA og bráðu blóðþurrðarslagi er því hvort vísbendingar séu um að drep haf orðið 10 Áður var TIA skilgreint eftir tímalengd brottfallseinkenna, það er hvort þau vörðu skemur en sólarhring. Nú er vitað að ef brottfallseinkenni vara lengur en klukkustund hefur blóðþurrð oftast leitt til óafturkræfs skaða, eða heiladreps.11
Orsakir
Algengt er að skipta orsökum blóðþurrðarslags í stóræðakölkun (large artery atherosclerosis), segarek frá hjarta (cardioembolism), smáæðalokun (small-vessel occlusion), aðra þekkta orsök eða óþekkta orsök. Orsök er talin vera óþekkt ef tvær eða feiri mögulegar orsakir greinast, ef uppvinnsla gefur ekki niðurstöðu eða er ófullnægjandi (incomplete).12 Talið er að stóræðakölkun valdi um 23% blóðþurrðarslaga, segarek frá hjarta um 22% og smáæðalokun um 22%. Í um 3% tilvika er önnur þekkt og oft sjaldgæf orsök fyrir blóðþurrðarslagi, svo sem æðakvilli (vasculopathy) eða ættgengur sjúkdómur. Oftast er orsökin þó óþekkt, eða í um 26% tilvika.13 Í íslenskri rannsókn, sem framkvæmd var á 12 mánaða tímabili frá 2007 til 2008, var orsökin stóræðakölkun hjá 7% sjúklinga sem höfðu fengið blóðþurrðarslag, segarek frá hjarta hjá 36%, smáæðalokun hjá 12% en það var önnur þekkt orsök hjá 2% sjúklinga. Oftast var orsökin óþekkt, eða hjá 42% sjúklinga, en af þeim höfðu einungis 59% fengið fulla uppvinnslu á orsök slagsins.8
Áhættuþættir
Hægt er að skipta áhættuþáttum slags í óbreytanlega og breytanlega áhættuþætti, það er eftir því hvort hægt sé að hafa áhrif á þá eða ekki. Sterkasti óbreytanlegi áhættuþátturinn fyrir slagi er aldur, en á hverjum 10 árum eftir 55 ára aldur tvöfaldast líkurnar á fyrsta slagi.14 Aðrir óbreytanlegir áhættuþættir eru karlkyn, jákvæð fölskyldusaga og saga um fyrra heilablóðfall eða skammvinna heilablóðþurrð (TIA).4 Hægt er að eigna tilurð meira en 80% slagtilfella 10 breytanlegum áhættuþáttum. Af þeim vegur háþrýstingur mest en honum er eignað 57% af glötuðum góðum æviárum vegna slaga.1 Aðrir breytanlegir áhættuþættir eru reykingar, sykursýki, blóðfturöskun og kviðaroffta. Í þessu felst mikið tækifæri til að draga úr nýgengi slags.3 Hægt er að reikna áhættu fyrir slagi og öðrum hjarta- og æðasjúkdómum með áhættureikni, til dæmis SCORE2 sem tekur tillit til aldurs, kyns, slagþrýstings, blóðftu og reykinga.15
Einkenni
Einkenni slags geta verið mörg og fölbreytt og fara eftir stærð og staðsetningu þess svæðis sem verður fyrir skaða. Algeng einkenni slags eru skyndileg tilkoma kraftminnkunar í andliti eða útlimum öðru megin, málstol, þvoglumælgi, skerðing í sjónsviði eða skynminnkun. Önnur einkenni sem teljast best samrýmast slagi í aftari blóðveitu (posterior circulation) eru jafnvægisleysi eða snúningssvimi, óregluhreyfngar við göngu (gait ataxia) eða í útlimum öðru megin, tvísýni, augnhreyftrufun eða augntin (nystagmus). Einnig fylgir höfuðverkur oft slagi.16, 17 Áhersla er lögð á að almenningur og fagfólk þekki nokkur dæmigerð einkenni slags sem eru kölluð FAST einkenni. F stendur fyrir andlitslömun öðru megin (face drooping), A stendur fyrir máttminnkun í handlegg (arm weakness), S stendur fyrir erfðleika við tal (speech diffculty) en T stendur fyrir tíma, þá bæði mikilvægi þess að taka eftir tímasetningu hvers einkennis og að mikilvægt sé að hringja í neyðarlínuna ef grunur er um slag, þar sem hver mínúta telur.18
Af öllum blóðþurrðarslögum eru meira en 20% misgreind í fyrstu. Misst er af um 37% blóðþurrðarslaga í aftari blóðveitu miðað við um 16% slaga í fremri veitu. Þau teikn og einkenni sem helst tengjast því að misst sé af greiningu eru höfuðverkur, ógleði, uppköst, svimi, fog, yfrlið og erfðleikar við gang. Talið er að tafr á greiningu slags í aftari blóðveitu verði helst vegna þess að einkenni eru oftar ódæmigerð og ósértæk.19
Eitt helsta einkenni sjúklingsins í þessu tilfelli var svimi, sem er gríðarlega algengt vandamál og oftast af öðrum orsökum en slags. Í íslenskri rannsókn, þar sem skoðuð voru 163 tilfelli sjúklinga með svima, greindust 4% sjúklinga með alvarlegan miðtaugakerfskvilla.20 Mikilvægt er að geta greint klínískt á milli miðlægrar (central) og útlægrar (peripheral) orsakar svima. Oftast er stuðst við klínískt mat með HINTS til að greina á milli orsaka svima.21, 22 Ef svimi
er af miðlægri orsök er algengt að lárétt höfuðrykkjapróf (head impulse test) sé eðlilegt, að augntin sé lóðrétt eða lárétt og breyti um átt, og að skekkjupróf (test of skew) sé jákvætt.23 Einungis á að framkvæma HINTS prófun ef sjúklingur er ennþá með einkenni og til staðar er sjálfsprottið augntin, samkvæmt klínískum leiðbeiningum.24 Þess má einnig geta að nýlega birtust lofandi niðurstöður um skilvirkni Sudbury Vertigo Risk Score til að greina orsök svima en það þarf að sannreyna það með framsýnum rannsóknum.25
Slagheilkenni (stroke syndromes) Oft eru einkenni blóðþurrðarslags í tilteknu mynstri sem getur verið dæmigert fyrir meinsemd í tiltekinni æð og mynda þá slagheilkenni. Til eru ótalmörg slagheilkenni en þetta tilfelli gefur tækifæri til að taka tvö þeirra fyrir. Við versnun sjúklings á bráðamóttöku var mest áberandi svimi, augntin og í framhaldi þvoglumæli, meðvitundarskerðing, kraftminnkun og skyntap í gagnstæðum útlimum við lokuðu hryggslagæðina. Þessi einkennamynd fellur almennt að slagi í ofanverðum heilastofni en ekki að nákvæmri staðsetningu. Áhugavert er að sjúklingur var ekki með einkenni svokallaðs Wallenberg heilkennis, eða hliðlægs mænukylfuheilkennis (lateral
medullary syndrome), sem er algengt við slag tengt hryggslagæð. Hinsvegar voru einkenni sjúklings þegar honum versnaði við vöktun dæmigerð fyrir svokallað ,,top of the basilar“ heilkenni.
Wallenberg heilkenni: Orsakast af þrengingu eða lokun á hryggslagæð innan höfuðkúpu eða greinum hennar. Einkenni eru sundl, svimi, skynminnkun eða verkir í andliti, erfðleikar við að sitja óstuddur, snúningur í aðra áttina, hæsi og kyngingartregða (dysphagia). Í sömu hlið og meinsemd er staðsett getur komið fram minnkað sársauka- og hitaskyn í andliti, Horner heilkenni, óregluhreyfng útlima og lömun á raddbandi/barkakýli og/eða koki. Í hinni hlið líkamans getur komið fram minnkað sársauka- og hitaskyn í búk, útlimum eða bæði.26
,,Top of the basilar“ heilkenni: Orsakast af lokun í farlægri botnslagæð og við það getur blóðþurrð náð til ýmissa æða sem næra miðheila, stúku, hnakkablöð heilans og stundum til litla heila og getur því valdið nokkuð breytilegri klínískri mynd en augnhreyftrufanir og breytingar á meðvitund geta verið áberandi (tafa 2).27
Hugtakið slag ætti að nota í víðum skilningi og ná yfir allt eftirfarandi:
Blóðþurrðarslag Tímabil trufunar í taugakerf af völdum staðbundins blóðþurrðardreps í heila, mænu eða sjónhimnu, staðfest með meinarannsókn, myndgreiningu eða öðrum hlutlægum gögnum um staðbundinn skaða vegna blóðþurrðar í skilgreindu æðasvæði. Getur einnig verið staðfest með klínískum rökum um staðbundinn blóðþurrðarskaða ef einkenni hafa varað í 24 klukkustundir eða lengur eða leiða til dauða, ef aðrar orsakir hafa verið útilokaðar.
Slag vegna heilablæðingar Trufun í taugakerf sem þróast hratt sem má rekja til afmarkaðrar blóðsöfnunar í heilavef eða heilahólfum sem ekki er af völdum áverka.
Slag vegna innanskúmsblæðingar (subarachnoid hemorrhage) Trufun í taugakerf sem þróast hratt og/eða höfuðverkur vegna blæðingar í innanskúmsbil, sem er ekki af völdum áverka.
Slag vegna bláæðasega í heila (cerebral venous thrombosis) Drep eða blæðing í heila, mænu eða sjónhimnu vegna bláæðasega í heila. Einkenni eða teikn sem stafa einungis af afturkræfum bjúg án dreps eða blæðingar teljast ekki til slags.
Slag, ekki nánar skilgreint Skyndileg trufun í taugakerf sem er talin stafa af blóðþurrð eða blæðingu, sem varir ≥24 klukkustundir eða leiðir til dauða, en án nægilegra sannana til að hægt sé að fokka það sem eitt af ofangreindum tilvikum.
Slag getur einnig verið þögult, þá klínískt ógreint og/eða án bráðra einkenna
Þögult drep í miðtaugakerf (silent CNS infarction) Myndgreining eða taugameinarannsókn sýnir drep í miðtaugakerf án sögu um bráð taugaeinkenni sem rekja má til viðkomandi meinsemdar.
Þögul heilablæðing (silent cerebral hemorrhage)
Greining Við brátt slag er árangur meðferðar tímaháður og skiptir skjót og nákvæm greining því miklu máli. Mikilvægt er að hafa staðlað verklag í utanspítalaviðbragði, nota matskvarða (stroke scales), fytja sjúkling á mesta forgangi og gera sjúkrahúsi viðvart fyrir komu hans svo hægt sé að undirbúa móttöku og fá skjóta myndgreiningu. Mælt er með því að slagteymi sé látið vita af komu sjúklings við eða fyrir komu hans á bráðamóttöku. Við móttöku sjúklings þarf að tryggja öndunarveg, öndun og blóðrás (ABCs) og mæla lífsmörk. Taka skal blóðsykurstix hjá öllum sjúklingum þar sem blóðsykurlækkun getur líkst slagi. Mælt er með því að fá blóðprufur með blóðhag og mæla jónefni (electrolytes), kreatínín, hjartaensím og próþrombíntíma eða INR. Gera þarf hraða og hnitmiðaða taugaskoðun sem allra fyrst og skal nota matskvarða, svo sem National Institute of Health Stroke Scale (NIHSS) við mat og stigun brottfallseinkenna. Sérstaklega eru matskvarðar gagnlegir til hlutlægs mats á breytilegu klínísku ástandi. Mikilvægt er að fá sögu um tímalengd einkenna, þá sérstaklega hvenær sjúklingur var síðast alveg einkennalaus, og um fyrra heilsufar og lyf sjúklings með tilliti til mismunagreininga, áhættuþátta fyrir slagi og frábendinga fyrir segaleysandi meðferð og/eða segabrottnámi. Mælt er með því að sjúklingur fari sem allra fyrst í myndgreiningu og ekki verði tafr á úrlestri og túlkun samkvæmt leiðbeiningum AHA/ASA. Til að ferlið sé sem skilvirkast þarf góða samvinnu milli sjúkrafutninga, bráðamóttöku, slaglækna og myndgreiningarteyma.28-32
Myndgreining
Við grun um brátt slag notast fest sjúkrahús við tölvusneiðmynd (TS) af höfði án skuggaefnis við greiningu, bæði til að útiloka heilablæðingu og til að greina teikn um blóðþurrð eða lokun á æð, til dæmis teikn um þétta æð (dense vessel sign). Næst er gerð TS slagæðamynd með skuggaefni (angiography) til að sjá hvort lokun haf orðið á stórri slagæð. Mikilvægt er að vita staðsetningu lokunar með tilliti til vals á meðferð, það er hvort sjúklingur fái segaleysandi meðferð eða fari í segabrottnám.30
Við skoðun eru að jafnaði klínísk brottfallseinkenni sem samsvara öllu því svæði sem hefur skert blóðfæði en ekki einungis því sem hefur fæði undir krítísku gildi við gegnumfæðisrannsókn og telst þannig ekki lengur lífvænlegt. Þannig endurspeglar umfang einkenna ekki alltaf óafturkræft skaðaðan vef og það getur verið verulegur bjarganlegur vefur þó sjúklingur haf mikil brottfallseinkenni.33
Afmörkuð blóðsöfnun eða niðurbrotsafurðir blóðs í heilavef, innanskúmsbili eða í heilahólfum á taugamyndgreiningu eða meinarannsókn, sem ekki er af völdum áverka og án sögu um bráð taugaeinkenni sem rekja má til meinsemdarinnar.
Tafa 2: Skilgreining slags samkvæmt AHA/ASA (5).
Ef sjúklingur kemur innan 4,5 klukkustunda frá staðfestu upphaf einkenna er ekki þörf á frekari myndgreiningu en TS af höfði og TS slagæðamynd, samkvæmt klínískum leiðbeiningum. Utan þess tíma þarf að framkvæma TS gegnumfæðismynd eða stutta segulómun til að fnna sjúklinga sem gætu haft gagn af meðferð, til dæmis þá sem vakna með slageinkenni, þegar ekki er vitað um staðfestan upphafstíma einkenna eða þegar 4,5 til 9 klukkustundir hafa liðið frá staðfestu upphaf einkenna.34
Sjóneinkenni Heilabarkarblinda (cortical blindness)
Samsíðusjóntap (homonymous visual loss)
Sjónumbreyting (visual metamorphosis)
Sjónofskynjanir (peduncular hallucinosis)
Óregluhreyfngar Lóðrétt augnhreyflömun
Lóðrétt misstaða augna
Samleitnis (convergence) augntin
Lömun á fráfærslu augna (pseudosixth palsy)
Lyfting og afturdráttur efra augnloks (Collier teikn) eða sig augnloks (ptosis)
Ósjálfráðar sveifuhreyfngar augna (occular oscillation)
Óeðlileg sjáöldur:
Stór/eðlileg og bregðast ekki við ljósi, smá eða sjáaldursfrávik (corectopia iris)
Breyting á meðvitund Skert vökustig og meðvitundarleysi
Minnisskerðing
Óráð, oft æst
Augnhreyftrufanir Óreglu- (ataxia), sveifu- (hemiballismus) eða rykkjóttar (chorea) hreyfngar
Segaleysing í bláæð (intravenous thrombolysis, IVT)
Gjöf segaleysingar í bláæð með alteplasa (recombinant tissue plasminogen activator, rtPA) eða tenecteplasa (tPA) miðar að því að leysa upp sega sem veldur skerðingu á blóðfæði til heilans og koma á endurfæði blóðs til að lágmarka varanlegan skaða.36, 39 Hvort ábending sé fyrir meðferð er ákveðið út frá tímalengd einkenna, klínísku mati og myndgreiningu. Mælt er með því að sjúklingar með brátt blóðþurrðarslag, sem varað hefur í minna en 4,5 klukkustundir, fái segaleysingu í æð nema ef brottfallseinkenni eru mjög væg (NIHSS 0 til 5). Ef staðfestur upphafstími einkenna er 4,5 til 9 klukkustundir eða nákvæmur upphafstími er óþekktur, til dæmis ef sjúklingur vaknar með einkenni (wake-up stroke), er einungis mælt með segaleysandi meðferð í æð ef TS gegnumfæðismynd eða segulómun hefur sýnt teikn um lífvænlegan vef.34 Ekki skal gefa segaleysandi meðferð ef blóðþrýstingur er yfr 185/110 mmHg34 og halda þarf blóðþrýstingi undir 180/105 mmHg fyrsta sólarhringinn eftir gjöf segaleysingar.29 Allnokkrar aðrar frábendingar eru einnig fyrir gjöf meðferðar.34 Til að draga úr töfum er mælt með að hefa gjöf segaleysandi meðferðar um leið og gengið hefur verið úr skugga um að sjúklingur haf ábendingu fyrir meðferð, oft inni á myndgreiningarstofu. Bið eftir niðurstöðum blóðrannsókna skal ekki tefa gjöf segaleysingar ef ekki er grunur um að þær sýni frábendingu fyrir gjöf. Eftir gjöf segaleysingar í bláæð eru sjúklingar lagðir inn á sérhæfða slageiningu eða gjörgæslu þar sem fylgst er náið með blóðþrýstingi og taugaeinkennum, þá sérstaklega með tilliti til hættu á innankúpublæðingu.29
Segabrottnám
TS gegnumfæðismynd er gagnleg til þess að meta heildarumfang þess svæðis sem hefur skert gegnumfæði (Tmax > 6 sekúndur). Ef gegnumfæði blóðs er undir krítísku gildi (rCBF (regional cerebral blood fow) < 30% eða CBV (cerebral blood volume) < 40%) telst vefurinn almennt ekki lífvænlegur. Mismunur milli heildarsvæðis sem er með blóðþurrð að frádregnu svæði með blóðfæði undir krítísku gildi telst vera svokallað bjarganlegt svæði eða jaðarsvæði (penumbra).35
Meðferð Við brátt blóðþurrðarslag er mikilvægt fyrir útkomu sjúklings að skerðingu blóðfæðis sé snúið við með því að koma sem fyrst á tryggu endurfæði blóðs með segaleysandi meðferð í bláæð36 eða með segabrottnámi.37 Árangur beggja meðferða er tímaháður því skjótari meðferð skilar betri útkomu.36, 38 Oft er hugtakið „tíminn er heili“ notað í þessu samhengi.
(mechanical thrombectomy, MT) Við segabrottnám er innanslagæðaleggur (intraarterial catheter) þræddur frá útlægri ástungu, til dæmis náraslagæð, inn í innankúpuslagæð þar sem blóðsegi sem veldur þrengingu eða hindrun er farlægður með sogi eða annarri aðferð 29 Mælt er með segabrottnámi hjá sjúklingum með hindrun á stórri æð (large vessel occlusion) í fremri blóðrás, ásamt segaleysingu í bláæð þegar það á við, ef minna en sex klukkustundir eru frá upphaf einkenna. Ef ábending er bæði fyrir segaleysingu og segabrottnámi er frekar mælt með báðum meðferðum fram yfr einungis segabrottnám. Fyrirhugað segabrottnám ætti ekki að tefa eða koma í veg fyrir gjöf segaleysingar og segaleysing ætti ekki að tefa segabrottnám. Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á ávinning af því að sjúklingur með hindrun á stórri æð í fremri blóðrás undirgangist segabrottnám ef sex til 24 klukkustundir eru liðnar frá því að sjúklingur var án slageinkenna ef sjúklingur er með teikn um lífvænlegan vef við TS gegnumfæðisrannsókn.10, 29, 40 Vegna þeirra alvarlegu afeiðinga sem lokun á botnslagæð getur haft í för með sér ætti sterklega að íhuga segabrottnám, ásamt segaleysingu þegar það á við, allt að 24 klukkustundum eftir að einkenni slags koma fram, sérstaklega hjá sjúklingum með alvarlegri einkenni (NIHSS ≥ 10).40, 41
Fyrirbyggjandi lyfjameðferð í kjölfar slags
Mælt er með lyfameðferð hjá sjúklingum sem hafa fengið blóðþurrðarslag eða skammvinna heilablóðþurrð (TIA) til að koma í veg fyrir annað áfall, hvort sem sjúklingur hefur fengið segaleysingu eða farið í segabrottnám.42
Tvöföld blóðföguhamlandi meðferð er ráðlögð með aspiríni og klópídógreli til skamms tíma. Til langtímameðferðar er mælt með meðferð með annað hvort aspiríni eða klópídógreli (ekki bæði) til að minnka líkur á endurteknu blóðþurrðarslagi, ef slag er ekki talið orsakast af segareki frá hjarta.43 Mælt er með því að blóðþrýstingur náist undir 130/80 mmHg í langtímaeftirliti.44, 45 Mælt er með notkun statínlyfa í háum skömmtum til blóðftulækkunar og halda skal LDL kólesteróli undir 1,8 mmól/L í langtímameðferð 42, 44
Bæði er sykursýki áhættuþáttur fyrir slagi og útkoma sykursjúkra sjúklinga eftir slag er almennt verri. Ekki er talið að áköf (intensive) lækkun glúkósa í bráðafasanum eftir slag bæti horfur sjúklinga.46 Fyrir sjúklinga sem hafa fengið blóðþurrðarslag eða TIA, sem eru líka með sykursýki, er mælt með sykursýkismeðferð með lyfum sem einnig hafa sannaða gagnsemi við hjarta- og æðasjúkdómum (cardiovascular beneft) svo sem thíazólidíndíónum, GLP-1 viðtakaagónistum og SGLT-2 hemlum, til að minnka hættu á slagi.44
Vöktun eftir segaleysandi og segabrottnámsmeðferð Við vöktun sjúklinga eftir segaleysandi meðferð eða segabrottnám er skilgreindu verklagi fylgt þar sem lífsmörk eru tekin og sjúklingur er kvarðaður á NIHSS skalanum á 15 mínútna fresti fyrstu tvo klukkutímana, á 30 mínútna fresti næstu sex klukkutíma og á 60 mínútna fresti næstu 16 klukkutímana.47 Tilgangur vöktunar er að bera kennsl á versnun einkenna og geta þá gripið fjótt inn í. Nokkrar ástæður geta verið fyrir versnun slageinkenna svo sem innankúpublæðing, stækkun dreps, illvígur heilabjúgur, nýr eða endurtekinn blóðsegi á sama stað í sömu æð og segarek til annarrar æðar.48-50 Ef sjúklingur fór í segabrottnám þarf líka að fylgjast með einkennum og teiknum um fylgikvilla á stungustað, sem geta verið slagæðarspasmi, verkir, bólga, marblettir, blæðing, margúll (hematoma), púlserandi massi og leki úr stungustað. Einnig þarf að meta blóðfæði og taugavirkni farlægt stungustaðnum.47 Mikilvægt er að fyrirbyggja fylgikvilla, svo sem ásvelgingslungnabólgu og afeiðingar hreyfngarleysis.51 Við vöktun notar slageining Landspítala meðferðaknippi sem þjónar sem leiðarvísir að markvissu og hnitmiðuðu hjúkrunareftirliti eftir segaleysandi meðferð og/eða segabrottnám (mynd 3).
Lokaorð
Hér lýstum við tilfelli 55 ára manns með brátt blóðþurrðarslag í aftari veitu vegna æðakölkunar og skyndilegrar segamyndunar í hryggslagæð. Hann fékk segaleysandi meðferð 27 mínútum eftir versnun á bráðamóttöku og brottfallseinkenni löguðust mikið svo hann varð nær einkennalaus. Næstum tveimur tímum eftir gjöf segaleysandi meðferðar versnaði honum mikið við vöktun, sem uppgötvaðist án tafar og 11 mínútum síðar sýndi ný myndgreining að það hafði orðið segarek frá hryggslagæð til ofanverðar botnslagæðar með bráðum blóðþurrðareinkennum sem samrýmdust ,,top of the basilar“ heilkenni. Einungis 40 mínútum síðar hófst segabrottnám
sem svo var lokið 16 mínútum síðar, með góðum árangri. Við útskrift var sjúklingur nær einkennalaus. Sett var inn tvöföld blóðföguhamlandi meðferð og háskammta statínmeðferð. Við eftirlit mánuði síðar var sjúklingur við góða heilsu og fann ekki fyrir eftirköstum slagsins.
Tilfellið varpar ljósi á fölbreytt og lúmsk einkenni slags í aftari blóðveitu. Helstu einkenni sjúklings voru svimi og höfuðverkur, einkenni sem eru algeng og ósértæk og vekja oft ekki grun um slag. Það undirstrikar mikilvægi þess að íhuga slag sem mismunagreiningu, sérstaklega þegar svimi tengist öðrum einkennum frá taugakerf, svo sem augntini, óstöðugleika eða
talerfðleikum. Einnig er þetta kennsludæmi um sveifukennda framvindu blóðþurrðarslags í aftari blóðrás og sýnir hversu skyndilega ástand getur breyst þrátt fyrir árangursríka fyrstu meðferð. Tilfellið dregur fram hvernig samhæfð og skjót viðbrögð, samvinna margra fagaðila, snemmgreining, gagnreynd meðferð og skipulögð vöktun geta ráðið úrslitum fyrir sjúklinga með brátt blóðþurrðarslag og hvað alvarleg tilfelli geta endað vel með réttum viðbrögðum.
Tilfelli þetta er ritað og birt með leyf sjúklings.
Heimildir
1. Feigin VL, Brainin M, Norrving B, Martins SO, Pandian J, Lindsay P, et al. World Stroke Organization: Global Stroke Fact Sheet 2025. Int J Stroke. 2025;20(2):132-44.
2. Prendes CF, Rantner B, Hamwi T, Stana J, Feigin VL, Stavroulakis K, et al. Burden of Stroke in Europe: An Analysis of the Global Burden of Disease Study Findings From 2010 to 2019. Stroke. 2024;55(2):432-42.
3. Collaborators GBDS. Global, regional, and national burden of stroke and its risk factors, 1990-2019: a systematic analysis for the Global Burden of Disease Study 2019. Lancet Neurol. 2021;20(10):795-820.
4. Sveinsson OA, Kjartansson O, Valdimarsson EM. [Cerebral ischemia/infarctionepidemiology, causes and symptoms]. Laeknabladid. 2014;100(5):271-9.
5. Sacco RL, Kasner SE, Broderick JP, Caplan LR, Connors JJ, Culebras A, et al. An updated defnition of stroke for the 21st century: a statement for healthcare professionals from the American Heart Association/ American Stroke Association. Stroke. 2013;44(7):2064-89.
6. Potter TBH, Tannous J, Vahidy FS. A Contemporary Review of Epidemiology, Risk Factors, Etiology, and Outcomes of Premature Stroke. Curr Atheroscler Rep. 2022;24(12):939-48.
7. Tsao CW, Aday AW, Almarzooq ZI, Anderson CAM, Arora P, Avery CL, et al. Heart Disease and Stroke Statistics-2023 Update: A Report From the American Heart Association. Circulation. 2023;147(8):e93-e621.
8. Hilmarsson A, Kjartansson O, Olafsson E. Incidence of frst stroke: a population study in Iceland. Stroke. 2013;44(6):1714-6.
9. Thorarinsson BL, Klinke M, Sveinsson OA. [Acute stroke treatment in Landspitali University hospital - current status and future aims]. Laeknabladid. 2025;111(4):166-74.
10. Mendelson SJ, Prabhakaran S. Diagnosis and Management of Transient Ischemic Attack and Acute Ischemic Stroke: A Review. JAMA. 2021;325(11):1088-98.
11. Easton JD, Saver JL, Albers GW, Alberts MJ, Chaturvedi S, Feldmann E, et al. Defnition and evaluation of transient ischemic attack: a scientifc statement for healthcare professionals from the American Heart Association/American Stroke Association Stroke Council; Council on Cardiovascular
Surgery and Anesthesia; Council on Cardiovascular Radiology and Intervention; Council on Cardiovascular Nursing; and the Interdisciplinary Council on Peripheral Vascular Disease. The American Academy of Neurology affrms the value of this statement as an educational tool for neurologists. Stroke. 2009;40(6):2276-93.
12. Adams HP, Jr., Bendixen BH, Kappelle LJ, Biller J, Love BB, Gordon DL, et al. Classifcation of subtype of acute ischemic stroke. Defnitions for use in a multicenter clinical trial. TOAST. Trial of Org 10172 in Acute Stroke Treatment. Stroke. 1993;24(1):35-41.
13. Ornello R, Degan D, Tiseo C, Di Carmine C, Perciballi L, Pistoia F, et al. Distribution and Temporal Trends From 1993 to 2015 of Ischemic Stroke Subtypes: A Systematic Review and Meta-Analysis. Stroke. 2018;49(4):814-9.
14. Yousufuddin M, Young N. Aging and ischemic stroke. Aging (Albany NY). 2019;11(9):25424.
15. group Sw, collaboration ESCCr. SCORE2 risk prediction algorithms: new models to estimate 10-year risk of cardiovascular disease in Europe. Eur Heart J. 2021;42(25):2439-54.
16. Yew KS, Cheng EM. Diagnosis of acute stroke. Am Fam Physician. 2015;91(8):52836.
17. Imam YZ, Chandra P, Singh R, Hakeem I, Al Sirhan S, Kotob M, et al. Incidence, clinical features, and outcomes of posterior circulation ischemic stroke: insights from a large multiethnic stroke database. Front Neurol. 2024;15:1302298.
18. Darkhabani MZ, Homa-Bonell JK, Thoreson L, Bobholz JA, Spaulding D, Engebose M. BE FAST Versus FAST: A Randomized Pilot Trial Comparing Retention of Stroke Symptoms Between 2 Mnemonics. J Am Heart Assoc. 2024;13(19):e035696.
19. Arch AE, Weisman DC, Coca S, Nystrom KV, Wira CR, 3rd, Schindler JL. Missed Ischemic Stroke Diagnosis in the Emergency Department by Emergency Medicine and Neurology Services. Stroke. 2016;47(3):66873.
20. Ornolfsson A, Hjaltested E, Margretardottir OB, Petersen H. [Dizziness in the emergency department - do we lack clinical judgment?]. Laeknabladid. 2016;102(12):551-5.
21. Kattah JC. Use of HINTS in the acute vestibular syndrome. An Overview. Stroke Vasc Neurol. 2018;3(4):190-6.
22. Qiu T, Dai X, Xu X, Zhang G, Huang L, Gong Q. A prospective study on the application of HINTS in distinguishing the localization of acute vestibular syndrome. BMC Neurol. 2022;22(1):378.
23. Tsang BKT, Chen ASK, Paine M. Acute evaluation of the acute vestibular syndrome: differentiating posterior circulation stroke from acute peripheral vestibulopathies. Intern Med J. 2017;47(12):1352-60.
24. Edlow JA, Carpenter C, Akhter M, Khoujah D, Marcolini E, Meurer WJ, et al. Guidelines for reasonable and appropriate care in the emergency department 3 (GRACE-3): Acute dizziness and vertigo in the emergency department. Acad Emerg Med. 2023;30(5):442-86.
25. van Patot ET, Roy D, Baraku E, Patel K, McIsaac S, Singh R, et al. Validation of the Sudbury Vertigo Risk Score to risk stratify for a serious cause of vertigo. Acad Emerg Med. 2025;32(8):863-73.
26. Savitz SI, Caplan LR. Vertebrobasilar disease. N Engl J Med. 2005;352(25):2618-26.
27. Caplan LR. “Top of the basilar” syndrome. Neurology. 1980;30(1):72-9.
28. Ashcraft S, Wilson SE, Nystrom KV, Dusenbury W, Wira CR, Burrus TM, et al. Care of the Patient With Acute Ischemic Stroke (Prehospital and Acute Phase of Care): Update to the 2009 Comprehensive Nursing Care Scientifc Statement: A Scientifc Statement From the American Heart Association. Stroke. 2021;52(5):e164-e78.
29. Powers WJ. Acute Ischemic Stroke. N Engl J Med. 2020;383(3):252-60.
30. Powers WJ, Rabinstein AA, Ackerson T, Adeoye OM, Bambakidis NC, Becker K, et al. Guidelines for the Early Management of Patients With Acute Ischemic Stroke: 2019 Update to the 2018 Guidelines for the Early Management of Acute Ischemic Stroke: A Guideline for Healthcare Professionals From the American Heart Association/ American Stroke Association. Stroke. 2019;50(12):e344-e418.
31. van der Worp HB, van Gijn J. Clinical practice. Acute ischemic stroke. N Engl J Med. 2007;357(6):572-9.
32. Higashida RT, Furlan AJ, Roberts H, Tomsick T, Connors B, Barr J, et al. Trial design and reporting standards for intra-arterial cerebral thrombolysis for acute ischemic stroke. Stroke. 2003;34(8):e109-37.
33. Nogueira RG, Jadhav AP, Haussen DC, Bonafe A, Budzik RF, Bhuva P, et al. Thrombectomy 6 to 24 Hours after Stroke with a Mismatch between Defcit and Infarct. N Engl J Med. 2018;378(1):11-21.
34. Berge E, Whiteley W, Audebert H, De Marchis GM, Fonseca AC, Padiglioni C, et al. European Stroke Organisation (ESO) guidelines on intravenous thrombolysis for acute ischaemic stroke. Eur Stroke J. 2021;6(1):I-LXII.
35. Shulman JG, Abdalkader M. Imaging of Central Nervous System Ischemia. Continuum (Minneap Minn). 2023;29(1):54-72.
36. Emberson J, Lees KR, Lyden P, Blackwell L, Albers G, Bluhmki E, et al. Effect of treatment delay, age, and stroke severity on the effects of intravenous thrombolysis with alteplase for acute ischaemic stroke: a meta-analysis of individual patient data from randomised trials. Lancet. 2014;384(9958):1929-35.
37. Goyal M, Menon BK, van Zwam WH, Dippel DW, Mitchell PJ, Demchuk AM, et al. Endovascular thrombectomy after largevessel ischaemic stroke: a meta-analysis of individual patient data from fve randomised trials. Lancet. 2016;387(10029):1723-31.
38. Saver JL, Goyal M, van der Lugt A, Menon BK, Majoie CB, Dippel DW, et al. Time to Treatment With Endovascular Thrombectomy and Outcomes From Ischemic Stroke: A Metaanalysis. JAMA. 2016;316(12):1279-88.
39. Alamowitch S, Turc G, Palaiodimou L, Bivard A, Cameron A, De Marchis GM, et al. European Stroke Organisation (ESO) expedited recommendation on tenecteplase for acute ischaemic stroke. Eur Stroke J. 2023;8(1):8-54.
40. Turc G, Bhogal P, Fischer U, Khatri P, Lobotesis K, Mazighi M, et al. European Stroke Organisation (ESO) - European Society for Minimally Invasive Neurological Therapy (ESMINT) Guidelines on Mechanical Thrombectomy in Acute Ischaemic StrokeEndorsed by Stroke Alliance for Europe (SAFE). Eur Stroke J. 2019;4(1):6-12.
41. Nogueira RG, Jovin TG, Liu X, Hu W, Langezaal LCM, Li C, et al. Endovascular therapy for acute vertebrobasilar occlusion (VERITAS): a systematic review and individual patient data meta-analysis. Lancet. 2025;405(10472):61-9.
42. Dawson J, Bejot Y, Christensen LM, De Marchis GM, Dichgans M, Hagberg G, et al. European Stroke Organisation (ESO) guideline on pharmacological interventions for longterm secondary prevention after ischaemic stroke or transient ischaemic attack. Eur Stroke J. 2022;7(3):I-II.
43. Dawson J, Merwick A, Webb A, Dennis M, Ferrari J, Fonseca AC, et al. European Stroke Organisation expedited recommendation for the use of short-term dual antiplatelet therapy early after minor stroke and high-risk TIA. Eur Stroke J. 2021;6(2):VI.
44. Kleindorfer DO, Towfghi A, Chaturvedi S, Cockroft KM, Gutierrez J, Lombardi-Hill D, et al. 2021 Guideline for the Prevention of Stroke in Patients With Stroke and Transient Ischemic Attack: A Guideline From the American Heart Association/American Stroke Association. Stroke. 2021;52(7):e364-e467.
45. McEvoy JW, McCarthy CP, Bruno RM, Brouwers S, Canavan MD, Ceconi C, et al. 2024 ESC Guidelines for the management of elevated blood pressure and hypertension. Eur Heart J. 2024;45(38):3912-4018.
46. Mosenzon O, Cheng AY, Rabinstein AA, Sacco S. Diabetes and Stroke: What Are the Connections? J Stroke. 2023;25(1):26-38.
47. Rodgers ML, Fox E, Abdelhak T, Franker LM, Johnson BJ, Kirchner-Sullivan C, et al. Care of the Patient With Acute Ischemic Stroke (Endovascular/Intensive Care UnitPostinterventional Therapy): Update to 2009 Comprehensive Nursing Care Scientifc Statement: A Scientifc Statement From the American Heart Association. Stroke. 2021;52(5):e198-e210.
48. Simonsen CZ, Schmitz ML, Madsen MH, Mikkelsen IK, Chandra RV, Leslie-Mazwi T, et al. Early neurological deterioration after thrombolysis: Clinical and imaging predictors. Int J Stroke. 2016;11(7):776-82.
49. Wong GJ, Yoo B, Liebeskind D, Baharvahdat H, Gornbein J, Jahan R, et al. Frequency, Determinants, and Outcomes of Emboli to Distal and New Territories Related to Mechanical Thrombectomy for Acute Ischemic Stroke. Stroke. 2021;52(7):2241-9.
50. Kim JM, Bae JH, Park KY, Lee WJ, Byun JS, Ahn SW, et al. Incidence and mechanism of early neurological deterioration after endovascular thrombectomy. J Neurol. 2019;266(3):609-15.
51. Klinke ME, Thorarinsson BL, Sveinsson OA. Acute Stroke Units Nested within Broader Neurology: Care Bundles for Nursing to Enhance Competence and Interdisciplinary Coordination. Curr Neurol Neurosci Rep. 2025;25(1):21.

Inngangur
58 ára kona leitaði á bráðamóttöku í Fossvogi með skyndilegan hita, höfuðverk, hósta og andþyngsli yfr brjóstkassa með vægum takverk. Hún neitaði kvefeinkennum, hjartsláttartrufunum, mæði, ógleði, uppköstum og einkennum frá þvagvegum, en hún hafði nýlokið kúr af pívmecillínam vegna þvagfærasýkingar. Hún er með brjóstakrabbamein og var í undirbúningsmeðferð (e. neoadjuvant) með nab-paclitaxel, carboplatin, trastuzumab og pertuzumab sem hún fékk síðast 8 dögum fyrr. Hún lýsti vatnskenndum niðurgangi í tengslum við krabbameinslyfagjöfna en neitaði niðurgangi við komu á bráðamóttöku. Einnig hafði hún gengist undir liðskiptaaðgerð á hægra hné um 3 mánuðum fyrr. Hún lýsti óþægindatilfnningu í hægra hné með slætti og hafði einnig tekið eftir vaxandi roða og bólgu í hnénu. Hún hafði ekki fundið fyrir óþægindum í hnénu áður og neitaði nýlegum áverkum.
Skoðun við komu
Við skoðun var hún með háan hita, 38,9°C, og aðeins lágþrýst (BÞ 100/54 mmHg).
Púls var 79 slög á mínútu, mettun 95% án viðbótarsúrefnis og öndunartíðni 20 á mínútu.
Hún var vel vakandi, skýr og gaf góða sögu. Hjartahljóð voru regluleg, S1 og S2 greinileg og engin óhljóð heyrðust. Enginn bjúgur var á fótum. Við lungnahlustun heyrðist brak basalt beggja vegna. Á hægra hné sást ör eftir aðgerð, það var metið vægt rautt, heitt og bólgið, en ekki þreifaðist greinilegur vökvi.
Rannsóknir við komu
Teknar voru blóðprufur, þvagrannsóknir, hjartalínurit og röntgenmynd af lungum við komu. Blóðprufur sýndu hemóglóbín lítillega lækkað, 105 g/L, hækkaðan hvítkornafölda, 15 × 10⁹/L, og hátt C-viðbragðsprótín, (e. C-reactive protein, CRP), 250. Röntgenmynd af lungum sýndi engar bráðar breytingar og veirustrok var neikvætt. Smásjárskoðun á þvagi sýndi mikið magn hvítkorna (>100) og baktería (++). Við skoðun fyrri rannsókna sást nýlegt þvagstix sem var sýkingarlegt en þvagræktun í kjölfarið var neikvæð. Hún hafði eftir sem áður verið sett á pívmecillínam kúr sem var nýlokið við komu á bráðamóttöku. Hjartalínurit var eðlilegt og trópónín gildi innan eðlilegra marka (13–14). Blóðræktun var tekin. Gangur í legu og helstu rannsóknir Hún var lögð inn sökum slappleika, hita og hækkunar á bólgumerkjum í blóði. Í legu komu fram ýmis vandamál. Til að byrja með glímdi hún við brjóstverki og væga kyngingarörðugleika. Tekið var hjartalínurit og trópónín í tvígang sem reyndust eðlileg. Hún var hvellaum yfr mótum rifeina og rifabrjósks og vaknaði grunur um geislungabólgu (e. costochondritis) sem er bólga í brjóskinu sem tengir rifein og rifabrjósk1. Einnig vaknaði grunur um millirifagigt þar sem hún hafði fyrri sögu og brjóstverkir fóru batnandi með aðkomu sjúkraþjálfara. Kyngingarörðugleikarnir skánuðu og voru því ekki unnir upp frekar. Meginvandamálin voru brjóstverkur og síhækkandi CRP og sökk, eins og má sjá á

Marta Ólafsdóttir
Sylvía Sara Ólafsdóttir
4.árs læknanemi
skólaárið 20242025
Sérfræðingur í lyfækningum
mynd 1. Við innlögn var CRP 250 og hækkaði mest upp í 354 á 3. degi legunnar (toppur á kúrfu). Ýmsar tilgátur komu fram um orsakir þessarar hækkunar og var sjúklingur settur á empiríska sýklalyfameðferð með ceftríaxóni frá innlögn. Í kjölfarið hófust hugleiðingar um mismunagreiningar vegna hækkunar bólgugilda.
Fyrst beindust spjótin að sýkingarlegu þvagstixi. Þvag sem sent var í bakteríuræktun sýndi engan vöxt. Næst beindust sjónir að vægum hita og roða í hægra hné stuttu eftir aðgerð. Deildarlæknir á vegum bæklunarskurðdeildar mat hnéð og framkvæmdi ástungu á öðrum degi innlagnar til að útiloka sýkingu. Ekki greindust afgerandi merki sýkingar í vökvanum og ekkert ræktaðist úr honum, en þó gæti hafa trufað niðurstöðuna að hún hafði verið empirískt á sýklalyfnu ceftríaxón frá innlögn.
Læknateymið ræddi við hennar krabbameinslækni varðandi það hvort krabbameinslyfn gætu valdið bólgusvari sem skýrði hækkun á CRP, en hann taldi svo vera ólíklegt.
Í ljósi þess að konan var með hósta var hrákasýni sent í sveppa-, atýpíska- og almenna ræktun. Þar ræktaðist einungis „eðlileg loftvegafóra“ og héldu því tilgáturnar áfram.
Til þess að leita að mögulegum bólgueða sjálfsofnæmissjúkdómum voru teknar ónæmisprufurnar ANA, ANCA og virkni komplementkerfsins mæld. Hún reyndist hafa vægt hækkað C-ANCA. Í kjölfarið var haft samband við ráðgefandi gigtarlækni til að

Mynd 2: Tölvusneiðmynd af brjóstholi þar sem má sjá ljósar slæður efst í lungum (hélubreytingar) og vökva aðlægt hjartanu.

Mynd 3: Tölvusneiðmynd af brjóstholi þar sem sjá má örvar númer eitt og tvö benda á hélubreytingar. Ör númer þrjú benda á feiðruvökva og númer fögur benda á bólgu aðlægt hélubreytingum.
útiloka ANCA tengdar æðabólgur (e.vasculitis) svo sem granulomatous polyangiitis (fyrrum Wegener), microscopic polyangiitis og eosinophilic granulomatous polyangiitis (fyrrum Churg-Strauss). Slíkir sjúkdómar valda dreifðum bólgum í æðum og er algengast að lungu, efri öndunarfæri og nýru verði fyrir áhrifum2. Gigtarlæknirinn taldi ólíklegt að um ANCA æðabólgu væri að ræða þar sem teikn og einkenni samræmdust því ekki, þ.e. ekki afmynduð rauð blóðkorn eða afsteypur, ekki andlitsverkir, liðbólgur eða útbrot og c-ANCA var einungis rétt yfr mörkum.
Í ljósi hita, hækkandi bólgumerkja og nýlegrar sögu um niðurgang var tekin tölvusneiðmynd af kviðarholi á 2. degi til að útiloka bólgur eða sýkingarpolla. Ekkert afrigðilegt greindist í kviðarholi en feiðruvökvi sást neðarlega í lungum beggja vegna. Þar sem magn feiðruvökvans var lítið , <2 cm í mesta lagi, og því ekki talinn nægilegur til að framkvæma ástungu og sýnatöku.
Á 3. degi innlagnar var CRP gildi með hæsta móti en ástand sjúklingsins var stöðugt og hún tjáði engin einkenni nema andþyngsli og óþægindi yfr rif- og brjóskmótum við þreyfngu og innöndun. Hún hafði verið hitalaus frá innlögn. Henni var lýst sem “furðu hressri” og fór heim í leyf á kvöldin. Hún sóttist eftir því að fá að útskrifast en teymið var hikandi vegna áframhaldandi hækkunar á bólgumerkjum sem ekki hafði fengist skýring á.
Þar sem feiðruvökvi hafði sést
á tölvusneiðmynd af kvið var fengin tölvusneiðmynd af brjóstholi til að útiloka íferðir, meinvörp og sýkingarpolla. Þar sáust auk feiðruvökvans hélubreytingar í lungnatoppum beggja vegna, sjá mynd 2 og 3. Ekki var lýst sértækum merkjum lungnabólgu en sagt var að hélubreytingarnar gætu verið á grunni sýkingar eða bólgu. Þessar breytingar voru ekki til staðar á tölvusneiðmynd sem tekin var fyrir krabbameinslyfameðferðina. Rætt var við ráðgefandi lungnalækni sem taldi þetta vera brjósthimnubólgu (e. pleuritis) auk lungnabólgu í neðri lungnableðil hægra megin aðlægt hélubreytingum, sjá mynd 3. Grunurinn beindist fremur að bakteríulungnabólgu en veirulungnabólgu. Tvö atriði studdu þá túlkun, annars vegar reyndust veirustrok við komu neikvæð og hins vegar var talið ólíklegt að veirulungnabólga myndi valda svo mikilli hækkun á CRP. Ráðleggingar í kjölfarið voru: Prednisólon daglega í 4 daga, áfram ceftríaxón en mætti skipta yfr í töfumeðferð með amoxicillínklavúlónat sýru ef CRP færi lækkandi, bæta svo við azitrómýcín. Azitrómýcín var bætt við til að ná yfr atýpískar bakteríur sem svara ekki beta-laktam lyfum, breikka empiríska meðferð og vegna mögulegra bólgueyðandi áhrifa3 Í ljósi þess að hún treysti sér til og vildi útskrifast fór hún heim á ofantalinni meðferð, með þéttu eftirliti bráðagöngudeildar lyfækninga. Þar vó þyngst klínískt batnandi líðan þrátt fyrir hátt bólgugildi (CRP 343, sökk 106). Fyrstu tvo dagana eftir útskrift mætti hún á göngudeild þar sem hún fékk sýklalyfagjöf í æð, en í kjölfarið var skipt yfr í töfumeðferð með amoxicillín-klavúlónat sýru heima fyrir.
Við komu á göngudeild þremur dögum eftir útskrift lýsti hún mjög batnandi líðan og hafði CRP snarlækkað úr 343 í 83. Var hún áfram við góða líðan eftir að stera- og sýklalyfameðferð lauk.
Brjósthimnubólga (pleuritis)
Brjósthimnubólga er bólgusvar í feiðru, himnunni sem umlykur lungun (lungnafeiðra) og brjóstvegginn að innan (veggfeiðra). Bólgan veldur ertingu á skynnæmri veggfeiðrunni og leiðir til einkennandi takverks, sem er hvass, staðbundinn og versnar við djúpa innöndun, hósta eða hnerra. Orsakir brjósthimnubólgu eru fölbreyttar. Algengastar eru veiru- og bakteríusýkingar í öndunarfærum, einkum lungnabólga sem teygir sig að feiðru. Aðrar orsakir eru lungnasegarek, sjálfsofnæmissjúkdómar (t.d. rauðir úlfar, liðagigt), illkynja mein, brjóstholsáverki, lyfatengd áhrif og loftbrjóst. Í sumum tilfellum er orsökin óþekkt (idiopathic pleuritis) 4,5 Klínísk einkenni ráðast af orsök og umfangi bólgunnar. Brjóstverkurinn er oft einhliða og honum getur fylgt mæði, hósti og almenn sýkingareinkenni. Við hlustun heyrist stundum pleural friction rub – gróft hljóð sem líkist því að ganga á ferskum snjó6 Greining byggir á nákvæmri sjúkrasögu og líkamsskoðun. Röntgenmynd af brjóstholi er fyrsta rannsókn, en tölvusneiðmynd getur
veitt nánari upplýsingar um dreifngu og orsök. Blóðrannsóknir og hjartalínurit eru oft næstu skref til að útiloka hjartasjúkdóma. Ef vökvi er til staðar getur verið rétt að framkvæma feiðruástungu til greiningar á tilurð vökvans7 Meðferð beinist fyrst og fremst að undirliggjandi orsök. Við sýkingartengda brjósthimnubólgu eru sýklalyf meginmeðferðin, en ef orsökin er sjálfsofnæmi eða bólgusjúkdómur geta sterar eða önnur ónæmisbælandi lyf verið gagnleg. Til verkjastillingar eru bólgueyðandi lyf lykilmeðferð. Ígerðir eða stór vökvasöfn í feiðruholi geta krafst tæmingar með dreni eða aðgerð8 Það má velta fyrir sér hvort um haf verið að ræða brjósthimnubólgu frá upphaf og bólgan ekki hjaðnað á sýklalyfum fyrr en sterameðferð var bætt við Það er þó þekkt að í sumum tilfellum brjósthimnubólgu nægja sýklalyf ekki ein til að bæla bólgusvarið Brjósthimnubólgan gæti einnig skýrt bæði hækkun á bólgumerkjum og brjóstverkinn sem upphafega var talinn vera vegna millirifagigtar4,9. Mögulegt er að sýklalyfn haf átt þátt í batnandi líðan sjúklingsins en sterarnir haf verið lykilþátturinn sem leiddi til fulls bata og lækkunar á bólgugildum.
Hækkun bólgumerkja í blóði Mæling á bólgumerkjum er lykilþáttur í klínísku mati á sjúklingum með grun um sýkingu eða bólgusjúkdóm. CRP er bráðafasaprótein sem hækkar hratt eftir áreiti og er því oft fyrsta rannsókn sem framkvæmd er þegar leitað er að undirliggjandi bólguferli. Í klínískri uppvinnslu er þó sjaldnast litið til CRP-gildis einungis heldur er það einn þáttur í heildarmati. Mikilvægt er að meta stig hækkunar í samhengi við einkenni, sögu og aðrar rannsóknir, þar á meðal hvítkornafölda, blóðræktanir og myndrannsóknir.
Endurteknar mælingar geta gefð upplýsingar um þróun sjúkdómsins og meðferðarsvar, lækkandi gildi CRP styður við árangursríka sýklalyfameðferð en viðvarandi eða hækkandi gildi geta gefð til kynna ranga meðferð, fylgikvilla eða ranggreiningu. Hvítkornaföldi og deilitalning bæta enn frekari upplýsingum við matið, einkum til aðgreiningar á bakteríu- og veirusýkingum. Þannig er uppvinnsla bólgugilda ferli sem byggir á stigvaxandi nálgun: upphafeg mæling til að staðfesta eða hrekja grun, endurteknar mælingar til að fylgjast með gangi og loks samþætting við klíníska mynd og aðrar rannsóknir til að leiða fram lokagreiningu og meðferðarákvörðun10 Í tengslum við þetta er vaxandi umræða um ofnotkun blóðprufa og rannsókna. Í grein frá Hollandi er rætt um ofnotkun rannsókna sem staðgengil fyrir klínískt innsæi, þar sem þættir líkt og óöryggi leiða til þess að feiri prufur séu pantaðar11 Þó má færa rök fyrir því að í tilfellum eins og þessu, þar sem um ræðir konu með undirliggjandi krabbamein og á margra lyfa krabbameinsmeðferð sem eykur hættu á alvarlegum sýkingum, sé skiljanlegt að gerðar séu ýmsar rannsóknir til að fylgjast með þróun bólgumerkja og leita að greiningu. Þetta sýnir vel togstreituna sem myndast getur um hvort vegi þyngra, klínískt ástand sjúklingsins eða niðurstöður úr prufum.
Lokaorð Í þessu sjúkratilfelli er fallað um 58 ára konu sem leitaði á bráðamóttöku vegna hita og almenns slappleika. Hún var lögð inn á bráðalyfækningadeild vegna hækkunar á CRP, hvítum blóðkornum og sökki, án augljósrar sýkingarorsakar. Í kjölfarið voru framkvæmdar víðtækar rannsóknir, þar á meðal blóðprufur, hjartalínurit, þvag-, saur- og hrákasýni, ástunga á gervilið, ónæmisrannsóknir, röntgenmynd af lungum, ásamt tölvusneiðmyndum (CT) af kvið og lungum. Ekki fannst líkleg skýring á hækkun sýkingarvísa fyrr en niðurstöður úr lungnatölvusneiðmynd bárust, þar sáust merki brjósthimnubólgu og samkvæmt ráðgefandi lungalækni einnig merki um lungnabólgu. Það sem vakti athygli í þessu tilviki var að þrátt fyrir áframhaldandi hækkun á CRP, sökki og hvítum blóðkornum, var klínísk líðan konunnar sífellt batnandi.
Á síðustu árum hefur aukin umræða skapast um ofnotkun rannsókna eins og CRPmælinga þegar enginn skýr orsök liggur fyrir. Þetta tilfelli vekur því spurningar um hversu mikið vægi rannsóknarniðurstöður ættu að hafa í ákvörðunum um meðferð og innlögn á sjúkrahús. Þurfum við að endurskoða verklag um hversu lengi sjúklingum er haldið inniliggjandi eingöngu vegna „versnandi blóðgilda“, þrátt fyrir að klínískt ástand þeirra sé batnandi?
Ef vaf leikur á, skoðaðu sjúklinginn!
Tilfelli þetta er ritað og birt með leyf sjúklings.
Heimildaskrá
1. Proulx AM, Zryd TW. Costochondritis: diagnosis and treatment. Am Fam Physician. Sep 15 2009;80(6):617-20.
2. Hrušková Z, Tesař V. ANCA-associated vasculitis from a clinical perspective. Cesk Patol. 2024;60(3):150-154. ANCAasociované vaskulitidy pohledem klinika.
3. Parnham MJ, Erakovic Haber V, GiamarellosBourboulis EJ, Perletti G, Verleden GM, Vos R. Azithromycin: mechanisms of action and their relevance for clinical applications. Pharmacol Ther. Aug 2014;143(2):225-45. doi:10.1016/j.pharmthera.2014.03.003
4. Reamy BV, Williams PM, Odom MR. Pleuritic Chest Pain: Sorting Through the Differential Diagnosis. Am Fam Physician. Sep 1 2017;96(5):306-312.
5. Tetsuhara K, Tsuji S, Uematsu S, Kamei K. Pulmonary Embolism Mimicking Infectious Pleuritis. Pediatr Emerg Care. Nov 2018;34(11):e201-e203. doi:10.1097/ pec.0000000000001104
6. Robinson T. Identifcation, assessment and management of pleurisy. Nurs Stand. Apr 6-12 2011;25(31):43-8. doi:10.7748/ ns2011.04.25.31.43.c8433
7. Kontos MC, de Lemos JA, Deitelzweig SB, et al. 2022 ACC Expert Consensus Decision Pathway on the Evaluation and Disposition of Acute Chest Pain in the Emergency Department: A Report of the American College of Cardiology Solution Set Oversight Committee. J Am Coll Cardiol. Nov 15 2022;80(20):1925-1960. doi:10.1016/j. jacc.2022.08.750
8. Altmann ES, Crossingham I, Wilson S, Davies HR. Intra-pleural fbrinolytic therapy versus placebo, or a different fbrinolytic agent, in the treatment of adult parapneumonic effusions and empyema. Cochrane Database Syst Rev. Oct 30 2019;2019(10)doi:10.1002/14651858. CD002312.pub4
9. Jóhannsson M. Hvað er millirifagigt? https:// www.visindavefur.is/svar.php?id=3529#
10. Singh B GA, Patel BC. C-Reactive Protein: Clinical Relevance and Interpretation. 2025. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/books/ NBK441843/
11. Vrijsen BEL, Naaktgeboren CA, Vos LM, van Solinge WW, Kaasjager HAH, ten Berg MJ. Inappropriate laboratory testing in internal medicine inpatients: Prevalence, causes and interventions. Annals of Medicine and Surgery. 2020/03/01/ 2020;51:48-53. doi:https://doi.org/10.1016/j. amsu.2020.02.002




Inngangur
Legslímufakk eða endómetríósa er langvinnur sjúkdómur sem einkennist af legslímuvef (kirtlar og grunnvefur) sem líkist legslímhúð (e. endometrium) og fnnst fyrir utan legið. Oftast sést/fnnst endómetríósa í grindarholi en getur verið víðar í líkamanum.1 Sjúkdómurinn hefur ýmsar birtingarmyndir og getur meðal annars valdið bólguviðbrögðum með samvöxtum í grindarholi og vanfrjósemi ásamt því að tengjast langvinnum grindarholsverkjum.2 Talið er að um 5-10% kvenna á frjósemisaldri lif með endómetríósu en hlutfallið er þó líklega vanmetið vegna áskorana við greiningu.3 Greining endómetríósu er gjarnan seinkuð og geta liðið 5-12 ár frá upphaf einkenna til greiningar.4 Sjúkdómurinn er háður hormóninu estrógen og má því helst sjá á frjósemisskeiði kvenna en algengi er mest á aldrinum 25-35 ára.2, 5 Sjúkdómurinn kemur oft fyrst fram sem grindarholsverkir, vanfrjósemi eða fyrirferð á eggjastokk.6
Áhættuþættir og orsakir
Orsakir
Orsök endómetríósu er óljós en ýmsar kenningar hafa komið fram á sjónarsviðið Þekktasta kenningin er sú að afturvirkar blæðingar (e. retrograde menstruation) geri legslímufrumum kleift að ferðast í gegnum eggjaleiðara og í grindarholið og valdi þar með sjúkdómnum. Hins vegar er talið að yfr 90% kvenna fái afturvirkar tíðablæðingar sem bendir til þess að feiri þættir komi við sögu í meinmyndun.2, 7
Afrigði í müllerian göngum er talið geta orsakað endómetríósu með því að loka fyrir útstreymi við tíðablæðingar en tæplega helmingur kvenna sem gangast undir skurðaðgerð vegna þessara afrigða greinast með endómetríósu.8, 9 Önnur kenning er sú að legslímufrumur ferðist með æða- og vessaæðakerf og komist þannig í grindarhol og víðar.10
Áhættuþættir og verndandi þættir Áhættuþættir fyrir endómetríósu eru að byrja snemma á blæðingum (≤ 12 ára), stuttur tíðahringur (≤ 26 dagar), ríkulegar blæðingar, minni líkamsstærð, lág fæðingarþyngd og að eiga fyrstu gráðu ættingja með sjúkdóminn. Aðrir þættir líkt og líkamsrækt og heilbrigt matarræði hafa verið ósamkvæmir milli rannsókna. Þunganir og brjóstagjöf
eru verndandi þættir. Útsetning fyrir gerviestrógeni (diethylstilbestrol) í móðurkvið hefur sýnt auknar líkur á endómetríósu. Hins vegar hefur útsetning fyrir reykingum í móðurkvið mögulega verndandi áhrif. Reykingar virðast hafa áhrif á styrk estrógens sem lækkar í blóðrás og undirstrikar því hve mikil áhrif estrógen er talið hafa á áhættu.3
Áhrif erfða Tvíburarannsóknir gefa til kynna að erfðir orsaki endómetríósu að hluta til. Stórar erfðafræðirannsóknir hafa borið kennsl á yfr 40 gen með tengsl við sjúkdóminn. Þessi gen liggja oft nálægt stýrigenum sem koma við sögu í hormónaboðum, frumusamloðun, bólgusvörun og vefauppbyggingu eins og til dæmis genin WNT4 og GREB1. Rannsóknir hafa einnig gefð til kynna að umbreytt genastjórnun (e. altered gene regulation) frekar en stökkbreytingar stuðli að óeðlilegum vexti og viðvarandi legslímubreytingum utan legsins.11-13
Hlutverk ónæmiskerfsins
Endómetríósa einkennist af óeðlilegu ónæmissvari í grindarholi. Legslímufrumur í grindarholi kvenna með endómetríósu hafa aukna viðloðunarhæfni og aukin bólguviðbrögð hjálpa þeim að festast og lifa.11, 14 Vöxtur breytinganna er háður estrógeni í blóðrás en einnig er aukin arómatasa virkni og tjáning á estrógenviðtaka β í breytingunni sjálfri sem myndar því sjálf estrógen. Þar að auki verður minnkuð sjálfdrápsvirkni (e. apoptosis) í breytingunni þar sem aukin tjáning á estrógenviðtaka β hamlar stýrðum frumudauða miðluðum af æxlisdrepsþætti α (tumor necrosis factor α, TNF- α). Tjáning prógesterónviðtaka β er bæld og veldur prógesterónviðnámi og því verður trufun á eðlilegri þroskun legslímu.11, 15 Konur með sjúkdóminn hafa aukinn földa virkjaðra átfruma og hærri styrk bólguboðefna eins og til dæmis interleukin-1β (IL-1β), interleukin-6 (IL-6) og TNF-α. Virkni náttúrulegra drápsfrumna (e. natural killer cells, NKfrumur) er minnkuð, starfsemi T-fruma virðist breytt og komast því legslímufrumur utan leghols undan ónæmiskerfnu. Krónísk bólga efir jafnframt nýmyndun æða, bandvefsmyndun og verkjanæmingu og því myndast bólguhringrás sem viðheldur meinsemdum.11, 16
Telma Rós
Jónsdóttir
4.árs læknanemi
skólaárið 20242025
Ragnheiður Oddný Árnadóttir
Sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
Birtingarmynd
Birtingarmynd endómetríósu getur verið fölbreytt. Endómetríósubreytingar geta fundist víða í grindarholi en algengustu staðsetningar þeirra eru í kringum legið, það er í eggjastokkum, leg-spjaldbeins liðböndum (e. uterosacral ligaments), eggjastokkagróf (e. ovarian fossa), Douglas poka (e. pouch of Douglas) og í þvagblöðru og ristli.17
Vefafræði
Endómetríósubreytingar samanstanda af frumum sem líkjast legslímufrumum með kirtlum og grunnvef (e. stroma).18
Breytingarnar geta innihaldið örvef, blóð og blöðrur. Blóðið er brotið niður af frumum ónæmiskerfsins og myndast því lituð vefakorn (e. histiocytes) og stórátfrumur sem innihalda vefajárn (e. hemosiderin) í breytingunum.19 Virkar meinsemdir sjást gjarnan sem rauðar blöðrur eða punktar á lífimnu en eldri breytingar geta birst sem hvít ör umlukin óeðlilegum æðum eða sem dökkbrúnir blettir.20
Flokkun endómetríósu
Endómetríósu í grindarholi má skipta í þrjá fokka. Lífimnu (e. peritoneal) endometríósa er legslímuvefur á yfrborði lífimnu og getur verið mismunandi í útliti. Legslímuvilluæxli (e. endometrioma) er blaðra á eggjastokki sem inniheldur legslímuvef ásamt blóði eða innhverfngu á legslímuvef. Þessar blöðrur eru stundum kallaðar „súkkulaðiblöðrur“ (e. chocolate cysts). Djúp endómetríósa (e. deep endometriosis, DE) er legslímuvefur sem fnnst í grindar- og/eða kviðarholi á eða undir yfrborði lífimnu og er ífarandi í aðlæg líffæri. Þessar breytingar geta myndað örvef og trufað eðlileg líffæri eða starfsemi líffæra.1 Djúpa endómetríósu má helst fnna í skilvegg milli legganga og ristils (e. rectovaginal septum), ristli, þvagblöðru, þvagleiðurum, liðböndum og leggöngum.21 Endómetríósa af lækningavöldum (e. iatrogenic) er annar undirfokkur endómetríósu og einkennist af endómetríósubreytingum, oftast í kviðvegg, eftir skurðaðgerð líkt og keisaraskurð eða kviðarholsspeglun. Endómetríósubreytingar geta einnig sést í meltingarvegi eða jafnvel utan kviðarhols, til dæmis í lungum og feiðru. 1, 22
Innri legslímuvilla (e. adenomyosis) er legslímuvefur staðsettur í legvöðvanum. Innri legslímuvilla telst ekki vera

Mynd 1: Stækkað leg, vefasvar sýndi innri legslímuvillu (e. adenomyosis).

Mynd 2: Tvíhliða (e. bilateral) legslímuvilluæxli (e. endometrioma) á eggjastokkum.

Mynd 3: Endómetríósubreytingar í lífimnu.
m
Mynd 4: Enzian fokkunarkerfð (2021).25
undirtegund af endómetríósu en má þó oft sjá samhliða sjúkdómnum.1 Myndir 1, 2 og 3 eru úr safni Ragnheiðar O. Árnadóttur kvensjúkdómalæknis og eru dæmi um mismunandi birtingarmyndir endómetríósu í kviðarholsspeglunum.
Hægt er að stiga alvarleika endómetríósu með stigunarkerf sem kallast Revised American Society for Reproductive Medicine classifcation of endometriosis (rASRM). Flokkunin byggist á staðsetningu, dreifngu og dýpt breytinganna, alvarleika þeirra og hvort breytingar nái til eggjastokka og eggjaleiðara. Flokkunarkerfð skiptist í fögur stig, frá minniháttar breytingum til alvarlegra breytinga.23 Hins vegar segir stigun sjúkdómsins ekki til um alvarleika einkenna.24 Önnur og nýrri stigun sem hefur mest verið notuð til þess að stiga djúpa endómetríósu kallast Enzian fokkun, sjá mynd 4. Árið 2021 var fokkunin uppfærð og kortleggur nú einnig stærð breytinga og aðkomu annarra aðlægra líffæra. Hægt er að stiga endómetríósu með #Enzian fokkunarkerfnu út frá myndgreiningu eða skurðaðgerð 25
Einkenni
Einkenni geta verið mismikil, sumar konur hafa lítilsháttar einkenni en aðrar mikil einkenni sem hafa áhrif á lífsgæði. Einkenni byrja yfrleitt snemma á frjósemisskeiði og minnka við tíðahvörf.26 Sýnt hefur verið fram á tengsl við minnkuð lífsgæði, áhrif á andlega líðan, kynlíf og starfsferil meðal kvenna með endómetríósu og króníska grindarholsverki samanborið við konur sem ekki lifa með sjúkdómnum.27
Algeng einkenni endómetríósu eru langvinnir verkir í kviðar- og grindarholi, miklir verkir við tíðablæðingar (e. dysmenorrhea), verkir við kynlíf (e. dyspareunia), ríkulegar tíðablæðingar (e. menorrhagia) og vanfrjósemi.6, 28 Verkir við kynlíf eru einkum tengdir við djúpa endómetríósu.24 Með auknum földa einkenna er líklegra að um sé að ræða endómetríósu.29 Önnur einkenni eru kviðverkir við egglos (e. mittelschmerz), óútskýrð þreyta, óþægindi frá meltingarfærum og verkir við hægðalosun og þvaglát.30
Verkir í endómetríósu tengjast ekki einungis meinsemdum í grindarholinu sjálfu, heldur verða breytingar á verkjaboðum meðal kvenna með endómetríósu samanborið við konur sem ekki eru með sjúkdóminn. Meinsemdir valda bólguviðbrögðum ásamt því að geta vaxið í taugar sem veldur sársaukaviðbragði (e. nociceptive pain). Viðvarandi bólga og nýmyndun tauga í meinsemdunum sjálfum veldur úttauganæmingu (e. peripheral sensitization) og er þröskuldur sársaukaboða því lækkaður. Aukið sársaukanæmi í miðtaugakerf er þekkt í langvinnum verkjum og kallast miðlæg næming (e. central sensitization) þar sem minnkun verður á hamlandi sársaukaboðum og aukning á mögnunarboðum jafnvel þrátt fyrir að áreiti sé farlægt. Þá getur einn langvinnur verkjasjúkdómur aukið líkur á öðrum.31, 32 Ofursársaukanæmi (e. hyperalgesia) getur orðið þegar úrvinnsla sársaukaboða breytist, meðal annars vegna aukinnar glutamatergískrar taugaboðvirkni í fremri insúlu (e. anterior insula) og tengingar við miðlægan forennisbörk (e. medial prefrontal cortex).33 Einnig hefur verið sýnt fram á að konur með endómetríósu eru í aukinni áhættu á krossnæmingu á sársaukaboðum milli líffæra (e. cross-organ sensitization) sem gæti að hluta til útskýrt áframhaldandi verki eftir skurðaðgerð 34 Endómetríósa veldur vanfrjósemi hjá 30-50% kvenna með sjúkdóminn. Orsök er ekki vel þekkt en alvarleg endómetríósa getur valdið samvöxtum í eggjaleiðurum, minnkuðum eggjaforða (e. ovarian reserve) og gæðum eggja og fósturvísa ásamt vandamálum tengdum bólfestu fósturvísis í legslímu.26
Aðrir tengdir sjúkdómar Konur með endómetríósu eru í aukinni áhættu á að fá eggjastokkakrabbamein af þekjufrumugerð (e. epithelial ovarian cancer) og hefur kerfsbundin yfrferð og safngreining sýnt fram á 2,3 falda áhættu á eggjastokkakrabbamein af endometrioidgerð (e. endometrioid ovarian cancer) og 3,4 falda áhættu á glærfrumugerð (e. clearcell ovarian cancer) samanborið við konur ekki með endómetríósu. Heildaráhætta á eggjastokkakrabbameini yfr ævina meðal kvenna með endómetríósu er 2,5% samanborið við 1,3% líkur meðal kvenna ekki með endómetríósu.35, 36 Þá eru konur með legslímuvilluæxli á eggjastokki og/eða djúpa
endómetríósu í ennþá meiri áhættu.37 Einnig virðist vera lítillega aukin áhætta á öðrum krabbameinum líkt og skjaldkirtilskrabbameini og brjóstakrabbameini og öðrum krónískum sjúkdómum en ósamræmi er þó milli rannsókna.35, 38 Rannsóknir hafa sýnt að konur með endómetríósu séu allt að þrefalt líklegri til að uppfylla greiningarskilmerki fyrir IBS (e. irritable bowel syndrome). Hins vegar er óljóst hvort sjúkdómarnir séu til staðar samtímis eða hvort endómetríósa eða meðferð við henni valdi meltingareinkennum.39, 40 Þá hefur verið sýnt fram á aukna áhættu á kransæðasjúkdómi (e. coronary heart disease, CHD) og þunglyndi og kvíða hjá konum með endómetríósu, þá líklega í tengslum við langvinna verki.41, 42
Greining
Greining endómetríósu samanstendur af ítarlegri sögutöku og skoðun ásamt viðeigandi rannsóknum. Gullstaðall greiningar hefur áður verið með kviðarholsspeglun þar sem breytingar sjást og eru staðfestar með vefagreiningu á vefasýni en samkvæmt klínískum leiðbeiningum ESHRE frá árinu 2022 er nú hægt er að setja greininguna endómetríósa án kviðarholsspeglunar, til dæmis með myndgreiningu.43 Hefa ætti meðferð með áhættulítilli meðferð líkt og samsettri hormónagetnaðarvörn ef saga og skoðun vekja grun um endómetríósu og ef frábendingar eru ekki til staðar og þar með minnka greiningartöf og bæta lífsgæði.44 Konur með viðvarandi grindarholsverki hafa lýst jákvæðum áhrifum á andlega og félagslega líðan við það að fá staðfesta greiningu á endómetríósu.45 Yfrlit yfr sögu, skoðun og helstu rannsóknir má sjá í töfu 1.30
Saga og skoðun Mikilvægt er að fá ítarlega sögu frá sjúklingi þar sem spurt er um verki við tíðablæðingar, egglos og samfarir og hvort þeir svari verkjastillingu, frjósemi, einkenni frá meltingarvegi og þvagblöðru, tímalengd einkenna og almenna heilsufarssögu. Spyrja ætti um áhættuþætti endómetríósu líkt og fölskyldusögu, sögu um afrigði í müllerian göngum, lengd tíðahrings og hvenær tíðir hófust (e. menarche). Einnig skal spyrja um langvinna grindarholsverki sem eru ekki tengdir tíðarblæðingum (e. non-cyclic) sem trufa daglegar athafnir.30, 43 Kvenskoðun er framkvæmd þar sem slímhúðir, leggöng og legháls eru skoðuð með andanefu og leitað er eftir merkjum um djúpa endómetríósu. Gerð er tvíhendisþreifng (e. bimanual palpation) yfr grindarholi og skimað eftir fyrirferðum eða eymslum yfr legi og eggjastokkum. Merki um endómetríósu eru aumir hnúðar í aftara hvolf (e. posterior fornix), fyrirferð á eggjastokk og óhreyfanlegt leg við þreifngu. Þá ætti að þreifa grindarbotnsvöðva og meta verki og spennu. Minnkaður hreyfanleiki kvenlíffæra gefur vísbendingu um útbreiddan sjúkdóm.26, 30
Saga Merki um endó
Verkir við tíðir? Já
Verkir við egglos? Já
Verkir við samfarir? Já
Magn tíðarblæðinga? Ríkuleg blæðing
Tímalengd einkenna? Mismunandi
Einkenni frá meltingarvegi og þvagblöðru? Já
Frjósemi? Vanfrjósemi 30-50%
Grindarholsverkir? Já
Ættarsaga? Já
Lengd tíðahrings? Stuttur tíðahringur
Hvenær hófust tíðir? Snemma
Almenn gyn saga
Almennt heilsufar og lyf
Skoðun
Tvíhandaþreifng Verkir og eymsli Óhreyfanlegt leg
Eymsli í grindarbotnsvöðvum
Fyrirferð á eggjastokk
Skoðun með andanefu Meinsemd í aftara leggangahvolf
Rannsóknir
Ómskoðun
Segulómun
Legslímuvilluæxli á eggjastokk
Samgróningar
Samvaxnir eggjastokkar
Innvöxtur í ristil/ þvagblöðru
Innri legslímuvilla
Tafa 1: Saga og skoðun – merki um endómetríósu.
Rannsóknir
Ómskoðun um leggöng er framkvæmd til þess að meta leg og eggjastokka. Hægt er að meta hreyfanleika milli legs og þvagblöðru annars vegar og legs og ristils hins vegar sem gefur vísbendingu um djúpa endómetríósu. Einnig má sjá merki um legslímuvilluæxli, vökva í grindarholi og samvaxna eggjastokka (e. kissing ovaries).30 Ómskoðun greinir legslímuvilluæxli á eggjastokk með yfr 90% næmi og sértæki.46 Ekki er hægt að meta minni meinsemdir eða ífarandi vöxt og útilokar því neikvæð ómskoðun ekki sjúkdóm.26, 30 Segulómun getur gagnast ef grunur er um djúpa endómetríósu eða vöxt í aðlæg líffæri líkt og þvagblöðru eða ristil. Segulómun getur einnig staðfest innri legslímuvillu. Neikvæð niðurstaða útilokar þó ekki sjúkdóm og sérstaklega ekki lífimnu endómetríósu.30, 43 Segulómun greinir djúpa endómetríósu með 94% næmi en 79% sértæki.46 Ekki er til áreiðanlegt lífmerki (e. biomarker) til þess að greina endómetríósu.47 Lífmerkið Ca-125 er oft hækkað í endómetríósu á hærri stigum en getur einnig hækkað í öðrum sjúkdómum líkt og í eggjastokkakrabbameini og öðrum illkynja sjúkdómum, góðkynja fyrirferð á eggjastokk, vöðvahnútum í legi og einnig í hjartabilun og lifrarsjúkdómum.48-50 Ca-125 ætti því ekki að nota til greiningar á endómetríósu.43 Nýlegar rannsóknir hafa verið gerðar á 109 mismunandi micro–ribonucleic acid (miRNA) í munnvatnssýnum ásamt gervigreind til þess að greina endómetríósu. Niðurstöður hafa verið vænlegar og gætu nýst við greiningu án þess að framkvæma ífarandi inngrip en sértæki og næmi prófsins er yfr 94%.51 Byrjað er að nota prófð víða um heim en það er enn sem komið er kostnaðarsamt.52
Meðferðir
Meðferðir við verkjum vegna endómetríósu eru með verkjalyfum, hormónameðferðum og skurðaðgerðum. Við val á meðferð þarf að íhuga kosti og galla hverrar meðferðar, óskir konunnar og frábendingar. Yfrlit yfr meðferð við endómetríósu má sjá í fæðiriti á mynd 5 og gefur einfalda hugmynd um hvernig má nálgast tilfelli almennt og er að hluta til unnin upp úr gæðaskjölum Landspítala.
Hormónameðferðir
Oft er fyrsta meðferð við endómetríósu lyfameðferð með hormónalyfum sem beinist fyrst og fremst að því að bæla estrógen og þar með hamla vöxt endómetríósubreytinga og minnka bólgu.30, 53 Mælt er með samtali milli sérfræðings og sjúklings þar sem farið er yfr kosti og galla lyfameðferðar, aukaverkanir og óskir sjúklings og í framhaldi tekin upplýst ákvörðun. Fyrsta meðferð er með samsettri getnaðarvörn sem inniheldur hormónin prógesterón og estrógen og er gefn samfellt á töfuformi, sem skeiðarhringur eða forðaplástur. Frábendingar eru saga um blóðtappa hjá sjúkling eða fyrsta gráðu ættingja, offta, háþrýstingur, mígreni með áru og aukin segahneigð. Prógesterón getnaðarvörn inniheldur einungis hormónið prógesterón og er hægt að gefa samfellt í töfuformi, sem stungulyf á þriggja mánaða fresti eða með uppsetningu á
hormónalykkju.30, 43 Meðferð með samsettri getnaðarvörn eða eingöngu prógesteróni dregur úr verkjum við tíðablæðingar ásamt því að minnka grindarholsverki og verki við samfarir.54 Samsett hormónagetnaðarvörn er einnig verndandi gegn eggjastokkakrabbameini og legbolskrabbameini.55 Ef meðferð með samsettri hormónagetnaðarvörn eða prógesteróni eingöngu ber ekki árangur er annað val lyf sem hindrar viðtaka kynhormóna-losunarhormóns (e. gonadotropin hormone-releasing hormone antagonist, GnRH hemill).30 GnRH hemill binst við viðtaka í heiladingli án þess að virkja þá og bælir þar með framleiðslu kynhormóna og lækkar því styrk estrógens.56 GnRH hemill er því eingöngu notaður hjá konum með staðfesta endómetríósugreiningu þar sem lyfð framkallar tímabundið tíðahvarfaástand. GnRH hemill minnkar beinþéttni og er því mælt með uppbótarmeðferð með estrógeni og prógesteróni. Hámarkslengd meðferðar er 6 mánuðir en hægt er að lengja meðferð í undantekningartilfellum. Mælt er með meðferð með samsettum hormónum eða prógesteróni þegar meðferð með GnRH hemil lýkur til þess að fyrirbyggja versnun á verkjum. Lyfð Ryeqo® inniheldur relugolix, estradíól, noretísterónasetat og er því GnRH hemill ásamt uppbótarhormónameðferð og notað í völdum tilfellum í endómetríósu. Lyfð er á töfuformi og því auðvelt að rjúfa meðferð ef aukaverkanir eru miklar.30, 43 Sýnt hefur verið fram á að lyfð minnki verki og einnig að það sé öruggt eftir tveggja ára notkun.57 Aðrar lyfameðferðir sem eru lítið notaðar en vert að nefna eru lyf sem örva viðtaka kynhormónar-losunarhormóns (e. gonadotropin hormone-releasing hormone agonist, GnRH örvi) og valda afnæmingu á viðtakanum og þar með minnkaðri losun á kynhormóni (e. gonadotropin). Aukaverkanir eru meðal annars beinþynning og hjartasjúkdómar og þolist lyfð almennt verr en GnRH hemlar. Þá hafa lyf líkt og sértækir prógesterón viðtakamótarar (e. selective progesterone receptor modulator, SPRMs) og sértækir estrógen viðtakamótarar (e. selective estrogen receptor modulators, SERMs) verið prófaðir en ekki nægilega góðar rannsóknir liggja fyrir varðandi árangur ásamt því að alvarlegir fylgikvillar hafa verið tilkynntir.53
Hormónameðferðir hafa almennt sýnt góðan árangur en hins vegar eru um 11-19% kvenna sem ekki svara meðferðinni og um 25-34% kvenna fá endurkomu verkja innan 12 mánaða eftir að meðferð með hormónum er hætt.58
Verkjameðferð Grunnlyfameðferð við verkjum er parasetamól og bólgueyðandi lyf ef ekki er frábending. Við bráða versnun má nota tramadól eða parkódín. Önnur lyf sem geta gagnast við verkjum eru amitriptylín sem er þríhringlaga (e. tricyclic) geðdeyfðarlyf, fogaveikilyfð gabapentín og Norgesic® sem inniheldur vöðvaslakandi lyfð orfenadrínsítrat ásamt parasetamóli. Síðasta úrræði í verkjastillingu eru opíóða lyf sem almennt ætti þó að forðast.30, 34
Frjósemismeðferðir
Meðferð við vanfrjósemi vegna endómetríósu er með skurðaðgerð eða tæknifrjóvgun (e. assisted reproductive technologies, ART). Val á meðferð fer eftir ósk konunnar og eggjaforða en einnig skiptir aldur konunnar máli ásamt tímalengd vanfrjósemis, hvort verkir séu til staðar og/eða innri legslímuvilla og feira.59 Ekki er mælt með hormónameðferð fyrir konur með frjósemisvanda í þeim tilgangi að bæta frjósemi. Einnig er ekki mælt með hormónameðferð eftir skurðaðgerð í þeim tilgangi að auka frjósemi.43 Vísbendingar eru um að skurðaðgerð þar sem djúp endómetríósa er farlægð geti aukið frjósemi en þörf er á feiri rannsóknum og mæla því klínískar leiðbeiningar með skurðaðgerð fyrst og fremst ef verkir eru til staðar.43, 60 Þegar farlægja á legslímuvilluæxli á eggjastokk getur skurðaðgerð haft neikvæð áhrif á magn eggja í eggjastokknum. Ekki er mælt með því að farlægja legslímuvilluæxli fyrir frjósemismeðferð þar sem það hefur ekki sýnt fram á betri árangur.43
Ef um er að ræða alvarlega endómetríósu ætti að ræða kosti og galla þess að varðveita frjósemi líkt og með eggheimtu og frystingu eggja.43
Skurðaðgerðir
Kviðarholsspeglun er framkvæmd ef meðferð með hormónum ber ekki árangur eða er ekki möguleg, grindarholsverkir svara ekki meðferð með ólyfseðilsskyldum lyfum, grunur er um innvaxandi endómetríósu eða ef legslímuvilluæxli er til staðar á eggjastokk og mælist stærra en 5 cm eða veldur miklum verkjum.30 Í meðhöndlun á endómetríósu með skurðaðgerð er almennt mælt með því að farlægja breytingar (e. excision) í stað þess að brenna þær (e. ablation) til þess að minnka verki í tengslum við endómetríósu. Ef farlægja á legslímuvilluæxli í eggjastokki í skurðaðgerð er mælt með því að farlægja hýði í heild sinni í stað þess að tæma blöðruna þar sem þá eru minni líkur á endurkomu legslímuvilluæxlis og verkja. Þá er einnig mikilvægt að gæta varúðar þegar farlægja á legslímuvilluæxli til þess að lágmarka skaða á eggjastokk.43 Meðferð með skurðaðgerð getur verið annars vegar verndandi (e. conservative) þar sem einungis endómetríósubreytingar eru farlægðar eða hins vegar endanleg (e. defnitive) þar sem leg er farlægt með eða án eggjaleiðara og eggjastokka.61 Íhuga skal endanlega skurðaðgerð hjá konum sem ekki hafa ósk um frjósemi og hafa ekki svarað öðrum meðferðum. Þegar ákveða á hvort farlægja eigi einungis leg eða leg ásamt eggjastokkum (e. total hysterectomy) þarf að meta í hverju tilfelli kosti og galla slíkrar meðferðar líkt og áhrif tíðahvarfa, aldur konunnar og hvort þörf sé á uppbótarmeðferð með hormónum.43 Ef endómetríósu er ekki að fnna í eggjastokkum eða ef aukin áhætta á eggjastokkakrabbameini er ekki til staðar, til dæmis vegna BRCA1 stökkbreytingar, er ekki er mælt með því að farlægja þá.62, 63 Þá hafa rannsóknir sýnt aukna áhættu á hjartaog æðasjúkdómum eftir legnám með eða án brottnámi á eggjastokkum og þá sérstaklega meðal yngri kvenna fyrir tíðahvörf.64 Ekki er mælt með hormónameðferð
Verkir?
Nei Já Já
Skurðaðgerð eða frjósemismeðferð ef vanfrjósemi
Frjósemismeðferð ef vanfrjósemi
Eftirlit á stofu eða heilsugæslu
Uppvinnsla á öðrum orsökum einkenna
Eftirlit á stofu eða heilsugæslu
Mynd 5: Flæðirit um meðferð endómetríósu.30, 43
fyrir skurðaðgerð til þess að bæta útkomu skurðaðgerðar og minnka verki en mælt er með hormónameðferð eftir skurðaðgerð ef frábendingar eru ekki til staðar þar sem sýnt hefur verið fram á minni verki samanborið við enga hormónameðferð (10,7% á móti 26,4% eftir 18 mánuði).43, 65 Samfelld notkun á samsettri getnaðarvörn hefur sýnt góðan árangur við að minnka líkur á endurkomu grindarholsverkja og legslímuvilluæxlis á eggjastokk eftir skurðaðgerð 66 Árangur skurðaðgerðar við endómetríósu fer eftir gerð sjúkdómsins. Í djúpri endómetríósu getur skurðaðgerð minnkað
Grunnverkjastilling með NSAIDs og Parasetamóli
Ósk um þungun?
Nei/Seinna
Frábending fyrir hormónameðferð?
Samsett hormónameðferð eða eingöngu prógesterón meðferð
Verkir enn til staðar?
Nei Já
Frjósemissparandi skurðaðgerð eða legnám
Staðfest endómetríósa?
Nei Já Nei
Verkur enn til staðar?
Já
Ósk um þungun seinna?
Nei Já
Frjósemissparandi skurðaðgerð eða legnám
Frjósemissparandi skurðaðgerð
Íhuga aðrar meðferðir líkt og sjúkraþjálfun eða sálfræðimeðferð
Íhuga meðferð með GnRH hemil
langvinna verki og aukið lífsgæði. Mælt er með því að skurðaðgerð, þar sem djúp endómetríósa er farlægð, sé framkvæmd af sérhæfðum meðferðaraðilum til þess að lágmarka áhættu á fylgikvillum.43 Einnig hefur skurðaðgerð þar sem endómetríósubreytingar milli legganga og ristils (e. rectovaginal) eru farlægðar sýnt að meltingarfæraeinkenni og verkir minnka.67 Þá virðist skurðaðgerð þar sem endómetríósubreytingar á legspjaldbeins liðböndum og eggjastokkum eru farlægðar einnig minnka verki. Erftt er að meta hvaða konur hljóti mestan ávinning af skurðaðgerð og hversu mikill ávinningurinn er
þegar kemur að endómetríósu á lífimnu.68 Eftir skurðaðgerð eru um 15-40% kvenna með verki innan tveggja ára en hlutfallið er þó mismunandi eftir rannsóknum, tegund skurðaðgerðar og hvort hormónameðferð eftir skurðaðgerð sé gefn eða ekki.69, 70 Tíðni enduraðgerða fer eftir því hvaða skurðaðgerð var upphafega framkvæmd og tímalengd eftirfylgdar. Samkvæmt rannsóknum gangast um 15-35% kvenna undir enduraðgerð eftir verndandi skurðaðgerð innan 10 ára og er tíðni enduraðgerða eftir endanlegar skurðaðgerðir lægri en eftir verndandi skurðaðgerðir.60, 71, 72 Þá eru enduraðgerðir
vegna endurkomu legslímuvilluæxlis á eggjastokk eftir skurðaðgerð allt að 27% innan tveggja ára meðal kvenna sem ekki fengu hormónameðferð eftir skurðaðgerð 73 Óljóst er hver ávinningur þess er að farlægja eggjastokka og virðist brottnám þeirra frekar gagnast konum með sjúkdóm í eggjastokkum en þörf er á frekari rannsóknum.74, 75
Aðrar meðferðir Almennt er mælt með reglulegri líkamsrækt, heilbrigðu mataræði og góðum svefnvenjum. Rannsóknir hafa þó ekki sýnt fram á ávinning með óyggjandi hætti í endómetríósu.30, 34 Önnur meðferð til viðbótar við hormóna- og verkjameðferð er meðal annars sjúkraþjálfun og sálfræðimeðferð Þar sem endómetríósa getur valdið langvinnum verkjum í grindarholi er oft spenna í grindarbotnsvöðvum. Tilvísun til sjúkraþjálfara með sérþekkingu á grindarverkjum getur því gagnast. Viðtöl við sálfræðing þar sem hugrænni atferlismeðferð er beitt getur sýnt góðan árangur. Þá geta þunglyndislyf líkt og serótónín-noradrenalín endurupptökuhemlar (e. serotonin and norepinephrine reuptake inhibitors, SNRI) gagnast í ákveðnum tilfellum. 30, 34
Þungun og endómetríósa
Einkennni endómetríósu geta breyst á meðgöngu en ekki er mælt með þungun með þeim tilgangi að meðhöndla einkenni.43 Rannsóknir hafa sýnt að auknar líkur eru á utanlegsþungun og fósturláti á fyrsta þriðjungi meðgöngu meðal þungaðra kvenna með endómetríósu og er einnig mælt með að meðferðaraðilar séu meðvitaður um aðra fylgikvilla síðar á meðgöngu þó þeir séu sjaldgæfr.43, 76 Rannsóknir eru ekki taldar nægilega góðar til þess að styðja aukna eftirfylgd á meðgöngu.43
Sérhæfðir meðferðaraðilar
Endómetríósuteymi Landspítala Greining og eftirlit vegna endómetríósu getur farið fram á 1. og 2. stigi heilbrigðisþjónustu, það er á heilsugæslu og/eða hjá kvensjúkdómalæknum á stofu. Meðferðir við endómetríósu, þar með talið skurðaðgerðir fara fram á Landspítala ásamt öðrum heilbrigðisstofnunum, til dæmis á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Sjúkrahúsinu á Akranesi og á einkareknum stofnunum líkt og Klíníkinni.
Endómetríósuteymi Landspítala er þverfaglegt teymi en í því starfa kvensjúkdómalæknar, svæfngalæknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingur og félagsráðgjaf. Markmið teymisins er að auka lífsgæði og koma sjúkdómnum í stöðugt ástand. Teymið sinnir bæði sjúklingum í greiningarferli með erfð einkenni og einnig sjúklingum sem ekki hafa náð árangri með meðferð 77 Sérfræðilæknar á heilsugæslu eða öðrum heilbrigðisstofnunum senda tilvísun til teymisins sem er yfrfarin af sérfræðilækni á Kvennadeild innan tveggja vikna. Ef beiðni er samþykkt fer meðferð að mestu fram á göngudeild. Kvensjúkdómalæknir hittir sjúkling og fer yfr heilsufarssögu, framkvæmir skoðun og metur þörf á frekari rannsóknum og meðferð 77 Úrræði teymisins samanstanda af verkjameðferð, lyfameðferð með hormónalyfum, skurðaðgerð ef lyfameðferð ber ekki árangur, sjúkraþjálfun, sálfræðimeðferð og félagsráðgjöf. Hjúkrunarfræðingur sinnir símaeftirliti og metur þörf á endurkomu eða bráðatíma hjá sérfræðilækni. Meðferð á teymi varir í eitt til tvö ár og fer langtímaeftirlit fram utan Landspítala þegar meðferðarmarkmiði er náð 77
Lokaorð Endómetríósa er langvinnur og fókinn sjúkdómur með fölbreyttar birtingarmyndir sem getur haft mikil áhrif á lífsgæði kvenna. Orsakir eru margþættar og ekki að fulla þekktar. Endómetríósa getur valdið langvinnum grindarholsverkjum og vanfrjósemi ásamt einkennum frá öðrum líffærakerfum og eru helstu meðferðir verkjastilling með verkjalyfum, hormónameðferðir og skurðaðgerð. Meðferðir eru misárangursríkar og því þörf á frekari rannsóknum. Þá má einnig íhuga aðrar meðferðir líkt og sjúkraþjálfun. Mikilvægt er fyrir lækna að vera meðvitaðir um algengi sjúkdómsins og að þekkja helstu einkenni hans og meðferðir ásamt því að geta metið hvort þörf sé á frekari uppvinnslu og meðferð og vísa þá áfram á viðeigandi sérfræðing. Þá er mikilvægt að vita að neikvæð skoðun og myndgreining útilokar ekki greiningu endómetríósu og sögutaka því ávallt mikilvæg.
Heimildaskrá
1. Tomassetti, C., N.P. Johnson, J. Petrozza, et al., An International Terminology for Endometriosis, 2021. J Minim Invasive Gynecol, 2021. 28(11): p. 1849-1859.
2. Zondervan, K.T., C.M. Becker, K. Koga, et al., Endometriosis. Nat Rev Dis Primers, 2018. 4(1): p. 9.
3. Shafrir, A.L., L.V. Farland, D.K. Shah, et al., Risk for and consequences of endometriosis: A critical epidemiologic review. Best Pract Res Clin Obstet Gynaecol, 2018. 51: p. 1-15.
4. De Corte, P., M. Klinghardt, S. von Stockum, et al., Time to Diagnose Endometriosis: Current Status, Challenges and Regional Characteristics-A Systematic Literature Review. Bjog, 2025. 132(2): p. 118-130.
5. Missmer, S.A., S.E. Hankinson, D. Spiegelman, et al., Incidence of laparoscopically confrmed endometriosis by demographic, anthropometric, and lifestyle factors. Am J Epidemiol, 2004. 160(8): p. 784-96.
6. Sinaii, N., K. Plumb, L. Cotton, et al., Differences in characteristics among 1,000 women with endometriosis based on extent of disease. Fertil Steril, 2008. 89(3): p. 538-45.
7. Halme, J., M.G. Hammond, J.F. Hulka, et al., Retrograde menstruation in healthy women and in patients with endometriosis. Obstet Gynecol, 1984. 64(2): p. 151-4.
8. Vercellini, P., N. Salmeri, E. Somigliana, et al., Müllerian anomalies and endometriosis as potential explanatory models for the retrograde menstruation/implantation and the embryonic remnants/celomic metaplasia pathogenic theories: a systematic review and meta-analysis. Hum Reprod, 2024. 39(7): p. 1460-1470.
9. Kapczuk, K., W. Zajączkowska, K. Madziar, et al., Endometriosis in Adolescents with Obstructive Anomalies of the Reproductive Tract. J Clin Med, 2023. 12(5).
10. Jerman, L.F. and A.J. Hey-Cunningham, The role of the lymphatic system in endometriosis: a comprehensive review of the literature. Biol Reprod, 2015. 92(3): p. 64.
11. Zondervan, K.T., C.M. Becker, and S.A. Missmer, Endometriosis. N Engl J Med, 2020. 382(13): p. 1244-1256.
12. Visscher, P.M., N.R. Wray, Q. Zhang, et al., 10 Years of GWAS Discovery: Biology, Function, and Translation. Am J Hum Genet, 2017. 101(1): p. 5-22.
13. Sapkota, Y., V. Steinthorsdottir, A.P. Morris, et al., Meta-analysis identifes fve novel loci associated with endometriosis highlighting key genes involved in hormone metabolism. Nat Commun, 2017. 8: p. 15539.
14. Klemmt, P.A., J.G. Carver, P. Koninckx, et al., Endometrial cells from women with endometriosis have increased adhesion and proliferative capacity in response to extracellular matrix components: towards a mechanistic model for endometriosis progression. Hum Reprod, 2007. 22(12): p. 3139-47.
15. Burney, R.O., S. Talbi, A.E. Hamilton, et al., Gene expression analysis of endometrium reveals progesterone resistance and candidate susceptibility genes in women with endometriosis. Endocrinology, 2007. 148(8): p. 3814-26.
16. Symons, L.K., J.E. Miller, V.R. Kay, et al., The Immunopathophysiology of Endometriosis. Trends Mol Med, 2018. 24(9): p. 748-762.
17. Audebert, A., S. Petousis, C. MargioulaSiarkou, et al., Anatomic distribution of endometriosis: A reappraisal based on series of 1101 patients. Eur J Obstet Gynecol Reprod Biol, 2018. 230: p. 36-40.
18. Comparison of risk factors for invasive squamous cell carcinoma and adenocarcinoma of the cervix: collaborative reanalysis of individual data on 8,097 women with squamous cell carcinoma and 1,374 women with adenocarcinoma from 12 epidemiological studies. Int J Cancer, 2007. 120(4): p. 88591.
19. Jansen, R.P. and P. Russell, Nonpigmented endometriosis: clinical, laparoscopic, and pathologic defnition. Am J Obstet Gynecol, 1986. 155(6): p. 1154-9.
20. Impey, L. and T. Child, Obstetrics & Gynaecology. 2017: John Wiley & Sons, Inc.
21. Woodward, P.J., R. Sohaey, and T.P. Mezzetti, Jr., Endometriosis: radiologicpathologic correlation. Radiographics, 2001. 21(1): p. 193-216; questionnaire 288-94.
22. Redwine, D.B., Diaphragmatic endometriosis: diagnosis, surgical management, and longterm results of treatment. Fertil Steril, 2002. 77(2): p. 288-96.
23. Revised American Society for Reproductive Medicine classifcation of endometriosis: 1996. Fertil Steril, 1997. 67(5): p. 817-21.
24. Vercellini, P., L. Fedele, G. Aimi, et al., Association between endometriosis stage, lesion type, patient characteristics and severity of pelvic pain symptoms: a multivariate analysis of over 1000 patients. Hum Reprod, 2007. 22(1): p. 266-71.
25. Keckstein, J., E. Saridogan, U.A. Ulrich, et al., The #Enzian classifcation: A comprehensive non-invasive and surgical description system for endometriosis. Acta Obstetricia et Gynecologica Scandinavica, 2021. 100(7): p. 1165-1175.
26. Hickey, M., K. Ballard, and C. Farquhar, Endometriosis. Bmj, 2014. 348: p. g1752.
27. As-Sanie, S., A.L. Shafrir, L. Halvorson, et al., The Burden of Pelvic Pain Associated With Endometriosis Among Women in Selected European Countries and the United States: A Restricted Systematic Review. J Minim Invasive Gynecol, 2024. 31(8): p. 653-666. e5.
28. Ballard, K.D., H.E. Seaman, C.S. de Vries, et al., Can symptomatology help in the diagnosis of endometriosis? Findings from a national case-control study--Part 1. Bjog, 2008. 115(11): p. 1382-91.
29. Hansen, K.E., U.S. Kesmodel, E.B. Baldursson, et al., Visceral syndrome in endometriosis patients. Eur J Obstet Gynecol Reprod Biol, 2014. 179: p. 198-203.
30. Landspítali, Endómetríósa - meðferðarferli, in Gæðahandbók Landspítala. 2025.
31. Brawn, J., M. Morotti, K.T. Zondervan, et al., Central changes associated with chronic pelvic pain and endometriosis. Hum Reprod Update, 2014. 20(5): p. 737-47.
32. McNamara, H.C., H.C. Frawley, J.F. Donoghue, et al., Peripheral, Central, and Cross Sensitization in EndometriosisAssociated Pain and Comorbid Pain Syndromes. Front Reprod Health, 2021. 3: p. 729642.
33. As-Sanie, S., J. Kim, T. Schmidt-Wilcke, et al., Functional Connectivity is Associated With Altered Brain Chemistry in Women With Endometriosis-Associated Chronic Pelvic Pain. J Pain, 2016. 17(1): p. 1-13.
34. Carey, E.T., S.R. Till, and S. As-Sanie, Pharmacological Management of Chronic Pelvic Pain in Women. Drugs, 2017. 77(3): p. 285-301.
35. Kvaskoff, M., Y. Mahamat-Saleh, L.V. Farland, et al., Endometriosis and cancer: a systematic review and meta-analysis. Hum Reprod Update, 2021. 27(2): p. 393-420.
36. Hermens, M., A.M. van Altena, T.E. Nieboer, et al., Incidence of endometrioid and clearcell ovarian cancer in histological proven endometriosis: the ENOCA population-based cohort study. Am J Obstet Gynecol, 2020. 223(1): p. 107.e1-107.e11.
37. Barnard, M.E., L.V. Farland, B. Yan, et al., Endometriosis Typology and Ovarian Cancer Risk. JAMA, 2024. 332(6): p. 482-489.
38. Kvaskoff, M., F. Mu, K.L. Terry, et al., Endometriosis: a high-risk population for major chronic diseases? Hum Reprod Update, 2015. 21(4): p. 500-16.
39. Nabi, M.Y., S. Nauhria, M. Reel, et al., Endometriosis and irritable bowel syndrome: A systematic review and meta-analyses. Front Med (Lausanne), 2022. 9: p. 914356.
40. Saidi, K., S. Sharma, and B. Ohlsson, A systematic review and meta-analysis of the associations between endometriosis and irritable bowel syndrome. Eur J Obstet Gynecol Reprod Biol, 2020. 246: p. 99-105.
41. Farland, L.V., W.J. Degnan, 3rd, M.L. Bell, et al., Laparoscopically Confrmed Endometriosis and Risk of Incident Stroke: A Prospective Cohort Study. Stroke, 2022. 53(10): p. 31163122.
42. van Barneveld, E., J. Manders, F.H.M. van Osch, et al., Depression, Anxiety, and Correlating Factors in Endometriosis: A Systematic Review and Meta-Analysis. J Womens Health (Larchmt), 2022. 31(2): p. 219-230.
43. Becker, C.M., A. Bokor, O. Heikinheimo, et al., ESHRE guideline: endometriosis†. Human Reproduction Open, 2022. 2022(2).
44. Agarwal, S.K., C. Chapron, L.C. Giudice, et al., Clinical diagnosis of endometriosis: a call to action. Am J Obstet Gynecol, 2019. 220(4): p. 354.e1-354.e12.
45. Ballard, K., K. Lowton, and J. Wright, What’s the delay? A qualitative study of women’s experiences of reaching a diagnosis of endometriosis. Fertil Steril, 2006. 86(5): p. 1296-301.
46. Nisenblat, V., P.M. Bossuyt, C. Farquhar, et al., Imaging modalities for the non-invasive diagnosis of endometriosis. Cochrane Database Syst Rev, 2016. 2(2): p. Cd009591.
47. Nisenblat, V., P.M. Bossuyt, R. Shaikh, et al., Blood biomarkers for the non-invasive diagnosis of endometriosis. Cochrane Database Syst Rev, 2016. 2016(5): p. Cd012179.
48. Mol, B.W., N. Bayram, J.G. Lijmer, et al., The performance of CA-125 measurement in the detection of endometriosis: a meta-analysis. Fertil Steril, 1998. 70(6): p. 1101-8.
49. Miralles, C., M. Orea, P. España, et al., Cancer antigen 125 associated with multiple benign and malignant pathologies. Ann Surg Oncol, 2003. 10(2): p. 150-4.
50. Moss, E.L., J. Hollingworth, and T.M. Reynolds, The role of CA125 in clinical practice. J Clin Pathol, 2005. 58(3): p. 308-12.
51. Bendifallah, S., H. Roman, S. Suisse, et al., Validation of a Saliva Micro-RNA Signature for Endometriosis. NEJM Evid, 2025. 4(11): p. EVIDoa2400195.
52. Ferrier, C., S. Bendifallah, S. Suisse, et al., Saliva microRNA signature to diagnose endometriosis: A cost-effectiveness evaluation of the Endotest®. Bjog, 2023. 130(4): p. 396-406.
53. Alonso, A., K. Gunther, S. Maheux-Lacroix, et al., Medical management of endometriosis. Curr Opin Obstet Gynecol, 2024. 36(5): p. 353-361.
54. Grandi, G., F. Barra, S. Ferrero, et al., Hormonal contraception in women with endometriosis: a systematic review. Eur J Contracept Reprod Health Care, 2019. 24(1): p. 61-70.
55. Iversen, L., S. Sivasubramaniam, A.J. Lee, et al., Lifetime cancer risk and combined oral contraceptives: the Royal College of General Practitioners’ Oral Contraception Study. Am J Obstet Gynecol, 2017. 216(6): p. 580.e1-580. e9.
56. Bedaiwy, M.A., S. Alfaraj, P. Yong, et al., New developments in the medical treatment of endometriosis. Fertil Steril, 2017. 107(3): p. 555-565.
57. Becker, C.M., N.P. Johnson, S. As-Sanie, et al., Two-year effcacy and safety of relugolix combination therapy in women with endometriosis-associated pain: SPIRIT openlabel extension study. Hum Reprod, 2024. 39(3): p. 526-537.
58. Becker, C.M., W.T. Gattrell, K. Gude, et al., Reevaluating response and failure of medical treatment of endometriosis: a systematic review. Fertil Steril, 2017. 108(1): p. 125-136.
59. Petraglia, F., S. Vannuccini, P. Santulli, et al., An update for endometriosis management: a position statement. Journal of Endometriosis and Uterine Disorders, 2024. 6: p. 100062.
60. Drechsel-Grau, A., M. Grube, F. Neis, et al., Long-Term Follow-Up Regarding Pain Relief, Fertility, and Re-Operation after Surgery for Deep Endometriosis. J Clin Med, 2024. 13(17).
61. Treatment of pelvic pain associated with endometriosis: a committee opinion. Fertil Steril, 2014. 101(4): p. 927-35.
62. Kvaskoff, M., A.W. Horne, and S.A. Missmer, Informing women with endometriosis about ovarian cancer risk. Lancet, 2017. 390(10111): p. 2433-2434.
63. Stewart, E.A., S.A. Missmer, and W.A. Rocca, Moving Beyond Refexive and Prophylactic Gynecologic Surgery. Mayo Clin Proc, 2021. 96(2): p. 291-294.
64. Thao, V., B. Borah, E.A. Stewart, et al., Cardiovascular Disease After Hysterectomy in the Nurses’ Health Study and Nurses’ Health Study II. Obstet Gynecol, 2025. 146(1): p. 85-93.
65. Zakhari, A., E. Delpero, S. McKeown, et al., Endometriosis recurrence following postoperative hormonal suppression: a systematic review and meta-analysis. Hum Reprod Update, 2021. 27(1): p. 96-107.
66. Vlahos, N., A. Vlachos, O. Triantafyllidou, et al., Continuous versus cyclic use of oral contraceptives after surgery for symptomatic endometriosis: a prospective cohort study. Fertil Steril, 2013. 100(5): p. 1337-42.
67. Byrne, D., T. Curnow, P. Smith, et al., Laparoscopic excision of deep rectovaginal endometriosis in BSGE endometriosis centres: a multicentre prospective cohort study. BMJ Open, 2018. 8(4): p. e018924.
68. Mustard, C., K. Snell, K.M. Lee, et al., Predicting pain reduction following laparoscopic surgery for endometriosis: a retrospective cohort study using UK national and research databases. BMJ Open, 2025. 15(8): p. e099374.
69. Singh, S.S., K. Gude, E. Perdeaux, et al., Surgical Outcomes in Patients With Endometriosis: A Systematic Review. J Obstet Gynaecol Can, 2020. 42(7): p. 881-888.e11.
70. Vercellini, P., G. Barbara, A. Abbiati, et al., Repetitive surgery for recurrent symptomatic endometriosis: What to do? European Journal of Obstetrics & Gynecology and Reproductive Biology, 2009. 146(1): p. 15-21.
71. Roman, H., I. Chanavaz-Lacheray, C. Hennetier, et al., Long-term risk of repeated surgeries in women managed for endometriosis: a 1,092 patient-series. Fertil Steril, 2023. 120(4): p. 870-879.
72. Soliman, A.M., E.X. Du, H. Yang, et al., Retreatment Rates Among Endometriosis Patients Undergoing Hysterectomy or Laparoscopy. J Womens Health (Larchmt), 2017. 26(6): p. 644-654.
73. Veth, V.B., A. Keukens, A. Reijs, et al., Recurrence after surgery for endometrioma: a systematic review and meta-analyses. Fertil Steril, 2024. 122(6): p. 1079-1093.
74. Long, A.J., P. Kaur, A. Lukey, et al., Reoperation and pain-related outcomes after hysterectomy for endometriosis by oophorectomy status. Am J Obstet Gynecol, 2023. 228(1): p. 57.e1-57.e18.
75. Lewin, J., A. Vashisht, M. Hirsch, et al., Comparing the treatment of endometriosisrelated pain by excision of endometriosis or hysterectomy: A multicentre prospective cohort study. Bjog, 2024. 131(13): p. 17931804.
76. Saraswat, L., D.T. Ayansina, K.G. Cooper, et al., Pregnancy outcomes in women with endometriosis: a national record linkage study. Bjog, 2017. 124(3): p. 444-452.
77. Landspítali, Endómetríósuteymi - ferli frá beiðni um þjónustu til útskriftar, in Gæðahandbók Landspítala. 2025.

Til meðferðar við brjóstsviða og tengdum einkennum t.d. magaóþægindum og sýrubakflæ
INNIHELDUR KALSÍUM- OG MAGNESÍUM KARBÓNAT
Ríflúxín 680 mg/ 80 mg, tuggutöflur, 24 stk, 48 stk og 96 stk. Virkt efni: Kalsíumkarbónat/magnesíumkarbónat. Ábendingar: Til meðferðar við brjóstsviða og tengdum einkennum fyrir 12 ára og eldri. Lyfið má nota á meðgöngu og á meðan brjóstagjöf stendur. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis e lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. RIF.L.A.2024.0008.01
FÆST ÁN LYFSEÐILS Í NÆSTA APÓTEKI | LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN
PIPARMYNTUBRAGÐ 1-2 TUGGUTÖFLUR EFTIR ÞÖRFUM SYKURLAUST alvogen.is


Inngangur
Í eftirfarandi sjúkratilfelli er skoðað hvernig væg einkenni geta verið birtingarmynd alvarlegs sjúkdóms. Karlmaður sem var nýlega byrjaður á nýjum lyfum við hækkun á blóðftum leitaði á heilsugæslu vegna marbletta. Hér verður greint frá skoðun og rannsóknum í upphaf og svo hvernig nánari rannsóknir og eftirfylgni leiddu til greiningar. Í framhaldi sjúkratilfellsins verður svo stutt fræðileg umræða um sjúkdómsgreiningu mannsins.
Saga núverandi veikinda
78 ára karlmaður með sögu um alvarlegan kransæðasjúkdóm og gáttatif leitaði á heilsugæslu vegna óútskýrðra marbletta sem höfðu fyrst komið fram fyrir um 2 mánuðum. Þá hafði hann nýlega verið settur á lyfð ezetimibe af sínum hjartalækni vegna blóðfturöskunar. Um 10 dögum eftir að hann byrjaði á lyfnu fóru marblettir að birtast um allan líkama án nokkurs áverka. Stór marblettur myndaðist á vinstri fótlegg sem leiddi frá hné og niður allan fótinn. Einnig myndaðist stór marblettur á öðrum upphandleggnum, á baki og á handarbaki annarrar handar. Maðurinn hafði líka fengið sár á hægra handarbak á milli þumals og vísifngurs sem hætti ekki að blæða úr og þurfti að leita á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri eftir að enn blæddi úr sárinu eftir 5 daga. Maðurinn fékk viðeigandi sáraumbúðir á bráðamóttökunni og náðist þá að stöðva blæðinguna. Ekki var gerð frekari uppvinnsla á bráðamóttökunni á þessum tímapunkti. Maðurinn hafði samband við lækni í fölskyldunni sem ráðlagði honum að hætta að taka ezetimibe þar sem það gæti verið að valda marblettunum. Maðurinn hætti því á lyfnu og við komu á heilsugæsluna hafði hann ekki tekið lyfð í 2 vikur. Hann var á blóðþynningarmeðferð vegna gáttatifs með rivaroxaban 20 mg 1x á dag en hann hafði verið á þeirri meðferð í mörg ár og aldrei áður fengið álíka einkenni. Við skoðun á húð sást að marbletturinn á hendinni var að hjaðna en engir aðrir marblettir voru sjáanlegir. Nokkrar minniháttar húðblæðingar (e. petechiae) sáust dreift yfr líkamann. Við líkamsskoðun þreifuðust ekki útlægar eitlastækkanir. Ekki þreifaðist klár lifrar- eða miltisstækkun.
Hrund
Guðmundsdóttir
4.árs læknanemi
skólaárið 2024-2025
Signý Vala Sveinsdóttir
Sérfræðingur í blóðlækningum
Bjarni A. Agnarsson
Sérfræðingur í meinafræði Lyf
Rivaroxaban 20 mg 1x1
Hjartamagnýl* 75mg 1x1
Ezetimibe 10mg 1x1
Metoprolol 47,5mg 1x1
Enalapril 32,5mg 1x1
Nifedipine 30mg 1x2
Rosuvastatin 10mg þriðja hvern dag
Alirocumabum 150mg/ml ein sprauta undir húð á tveggja vikna fresti
Levothyroxin 100mcg 1x1
Pregabalin 75mg 1x1
Melatonin vitabalans 5mg 1x1
Trimipramine 25mg 1x1
Senna 7,5mg eftir þörfum
Ismo 60mg eftir þörfum
Doloproct stíll 1mg+40mg eftir þörfum
Norgesic 35mg/450mg 2x1 eftir þörfum
Paracetamól 500mg 2x3 eftir þörfum
*Kom ekki fram fyrr en við nánari sögutöku síðar
Tafa 1: Lyf við komu.
Heilsufarssaga
Kransæðasjúkdómur – Hefur farið í fölmargar þræðingar, síðast árið 2023
Gáttatif
Slitgigt - Fór í aðgerð á hrygg 2021
• Blóðfturöskun
• Háþrýstingur
• Vanvirkur skjaldkirtill
• Kvíði
Svefnröskun
Ofnæmi
Bráðaofnæmi fyrir tradolan.
• Grunur um ofnæmi við simvastatin og amitryptiline. Ýmis einkenni.
Blóðþynning vegna gáttatifs
-
Blóðfturöskun – stöðvað 2 vikum fyrir komu á heilsugæslu
Kransæðasjúkdómur
Háþrýstingur
Háþrýstingur
Blóðfturöskun
Blóðfturöskun
Skjaldvakabrestur
Hryggslitgigt
Svefnvandi
Kvíði
Hægðatregða
Brjóstverkur
Gyllinæð
Stoðkerfsverkir
Verkir
Félagssaga
Giftur og býr með eiginkonu án aðstoðar heima. Þau eiga þrjú uppkomin börn. Keyrir sjálfur bíl. Vann sem vélaverkfræðingur, úti á sjó og í efnaverksmiðju. Möguleiki er á að hann haf verið útsettur fyrir geislun við fyrri störf. Er nú á eftirlaunum.
Venjur
Reykti í 30 ár, óljós földi pakkaára. Neytir áfengis í hóf.
Rannsóknir við komu Í ljósi þess að maðurinn hafði verið gjarn á að fá marbletti var ákveðið að fá blóðprufu til að kanna hvort blóðfögufæð gæti verið möguleg orsök. Blóðprufurnar sýndu lækkaðan blóðrauða (e. hemoglobin), blóðfögur mældust lækkaðar og daufyrningar (e. neutrophilar) mældust einnig undir
viðmiðunarmörkum (sjá töfu 2). Blóðleysið var meðalrauðkornablóðleysi (e. normocytic anemia). Á deilitalningu sást frumnamisstærð (anisócýtósis) og marghlutakjarnar (e. hypersegment) ásamt misstórum blóðfögum. Lifrarpróf og skjaldkirtilspróf voru einnig tekin og voru þau innan marka.
Frekari uppvinnsla og rannsóknir Hringt var í manninn eftir að kom úr niðurstöðu blóðprufa og fengin betri saga og kerfakönnun. Hann lýsti aukinni mæði og brjóstverkjum sem svöruðu sprengitöfum en leið annars vel. Neitaði kviðverkjum, bakfæði/brjóstsviða, dökkum hægðum eða blóði í hægðum. Tók engin bólgueyðandi lyf. Játaði kóklituðu þvagi á meðan var á ezetimibe en það hafði liðið hjá. Neitaði einkennum sem samrýmast B-einkennum líkt og þyngdartapi, nætursvita og óútskýrðan hita. Neitaði slappleika, kviðverkjum og snemmseddu. Lýsti því að hann væri enn að fá marbletti en þó í mun minna mæli en áður. Á þessum tíma voru fengnar ráðleggingar frá hjartalækni um hvort rétt væri að stöðva blóðþynningu vegna blóðleysis og blóðfögufæðar hjá manninum. Ákveðið var að taka nýjar blóðprufur og sjá hvort blóðleysið væri batnandi. Nýjar prufur voru teknar sem sýndu lækkandi blóðrauða en var nú vegna stórkornablóðleysis (e. macrocytic anemia), blóðfögur voru aðeins hækkaðar frá síðustu mælingu en undir viðmiðunargildum og daufyrningar voru enn rétt undir viðmiðunarmörkum. Sökk var vægt hækkað. Blæðingarpróf voru lengd, bæði P-PT og P-APTT en innan marka þegar gert var blöndunarpróf og samrýmdist því áhrifum blóðþynningar (rivaroxaban). Kreatínín var vægt hækkað og gaukulsíunarhraði var rétt undir viðmiðunarmörkum. Þó ekki það mikið að gæti skýrt aukin áhrif blóðþynningar. Járnpanell var eðlilegur og lifrarpróf voru aftur innan marka. Í ljósi þessara rannsóknaniðurstaðna var ákveðið að stöðva blóðþynningu í samráði við hjartalækni þegar búið var að taka hjartalínurit af manninum til að útiloka að hann væri í gáttatif. Hjartalínuritið sýndi reglulegan sínus takt og því blóðþynning tekin út í 5 daga og teknar nýjar blóðprufur eftir þann tíma. Að 5 dögum liðnum var enn til staðar stórkornablóðleysi en lítil breyting á blóðrauðagildi. Vítamín B-12-gildi og fólat voru innan eðlilegra marka. Blóðfögufæð var versnandi, kreatínín hækkandi og gaukulsíunarhraði var lækkandi Daufyrningar voru einnig enn undir viðmiðunarmörkum. Nú var send beiðni um frekari uppvinnslu á dagdeild lyfækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem óskað var eftir beinmergsástungu vegna gruns um byrjandi mergbilun. Eftir ráðgjöf frá blóðsjúkdómalækni á Sjúkrahúsinu á Akureyri var fenginn próteinrafdráttur sem var eðlilegur. Netfrumur voru mældar sem hafði misfarist að gera fyrr í uppvinnslunni. Þær voru innan viðmiðunarmarka en þó lægri en við mátti búast við miðað við lágt blóðrauðagildi. Þar gæti fyrsta vísbending verið um að beinmergurinn væri ekki að starfa eðlilega. Einnig mældist LD (e. laktat dehydrogenasi) hækkaður. Þá staðfesti blóðstrok með áliti sérfræðings frumnamisstærð (anísócýtósis) og
Blóðprufur Eining
blóðkorn
Gaukulsíunarhraði (CKD-EPI)
risarauðkornageri (e. macrocytosis) en einnig stórar blóðfögur sem gæti bent til útlægrar (e. perifer) eyðingar. Aðrar blóðprufuniðurstöður voru nokkuð svipaðar og áður nema blæðingapróf (APTT og PT) voru nú innan eðlilegra marka. Beinmergsástunga var framkvæmd á sjúkrahúsinu á Akureyri. Smásjárskoðun á beinmergsstorkinu sýndi aukningu á mjög ódæmigerðum atypískum risafrumum/ forverafrumum blóðfaga (e.megakaryocytar) með s.k. „cloudy“ kjarna. Að auki sást mikið aukið retíkúlín og byrjandi kollagen myndun á vefarannsókn borkjarnans. Greiningin var því beinmergur með beinmergstrefun (e. myelofbrosis). Í frumufæðisjá mátti sjá merki um lélega útþroskun í mergfrumulínu og væga aukningu á CD34+ blöstum. Einnig var gerð litningarannsókn sem sýndi fókna litningagerð þ.e. yfr 3 litningabreytingar. Greining á stökkbreytingum í erfðaefni með „Nextgeneration-sequencing (NGS)“ tækni sýndi stökkbreytingu í geni TP53 sem er hááhættu stökkbreyting. Út frá þessum niðurstöðum var greiningin talin vera frumkomin beinmergstrefun (e.primary myelofbrosis, PMF).
Fræðileg umræða Inngangur
Frumkomin beinmergstrefun (e. primary myelofbrosis, PMF) er af fokki mergofvaxtarsjúkdóma (e. myeloproliferative neoplasms) en aðrir eru frumkomin blóðfögufölgun (e. essential thrombocythemia, ET) og rauðkornadreyri (e. polycythemia PV, PVera).1 Einnig geta ET og PVera þróast yfr í síðkomna beinmergstrefun (e. secondary myelofbrosis). Í frumkominni beinmergstrefun er galli í blóðmyndandi stofnfrumum (e. hematopoetic stem cells) og/ eða forverafrumum vegna stöðugrar virkjunar á JAK-STAT boðleiðinni. Það leiðir svo til óeðlilegrar blóðmyndunar með offramleiðslu á mergfrumum, einkum afrigðilegum risa-/forverafrumum blóðfagna (e. megakaryocytes), og bólgusvari í beinmerg. Þessar frumur seyta miklu magni vaxtarþátta og boðefna sem örva m.a. trefakímfrumur (e. fbroblasts) og valda þannig beinmergstrefun sem tekur yfr stóran hluta beinmergsins. Vegna beinmergstrefunar
Eftirmálar og eftirlit Maðurinn fékk upplýsingar um sjúkdómsgreininguna en þar sem sjúkdómurinn er ekki læknanlegur í ljósi aldurs sjúklings og annarra undirliggjandi sjúkdóma sem takmörkuðu meðferðarmöguleika er meðferðin fyrst og fremst til stuðnings (sjá fræðilega umræðu). Hann er í reglulegum blóðprufum og fær blóðhlutagjafr eftir þörfum skv. ákveðnum viðmiðum. Vegna hjartasjúkdóms er miðast við að maðurinn fái rauðkornaþykkni ef blóðrauðagildi er undir 90 og gjöf blóðfagna ef gildi þeirra er undir 20. Einnig var hann settur á rauðkornavaka (e. erythropoietin) meðferð sem örvar rauðkornaframleiðslu í beinmerg. Blóðþynningarlyfð rivaraoxaban hefur verið tekið út vegna hættu á blæðingum. Hjartamagnýl var haldið inni vegna einkennagefandi kransæðasjúkdóms en með fyrirvara um að blóðfögugildi væri hærra en 40. Einnig hefur verið bætt inn lyfnu valaciclovir sem fyrirbyggjandi meðferð við veirusýkingum herpes veira. Þar sem maðurinn var ekki með mikil almenn einkenni (b-einkenni) og aðeins vægt stækkað milta var ákveðið að hefa ekki meðferð með JAK-2 hemli (ruxolitinib) að svo stöddu. Tæplega hálfu ári frá sjúkdómsgreiningu hafa blóðgildi versnað og forstig hvítra blóðkorna hafa aukist sem getur bent til byrjandi umbreytingar yfr í brátt hvítblæði.
skerðist blóðmyndun í merg og færist hún í önnur líffæri, einkum lifur og milta (e. extramedullary hematopoiesis) með stækkun á þessum líffærum.4
Í festum tilfellum er stökkbreyting í erfðaefninu eða litningafrávik sem orsaka sjúkdóminn. Þekktir erfðabreytileikar eru í þremur mismunandi genum það eru: JAK2, CALR og MPL. Algengasti erfðabreytileikinn er í JAK2 V617F en hann er til staðar hjá um 2/3 einstaklinga með frumkomna beinmergstrefun. Lítill hluti (um 10%) af einstaklingum með PMF eru ekki með neina af þekktu stökkbreytingunum, þ.e. eru þríneikvæð. Í þeim tilfellum eru yfrleitt aðrar stökkbreytingar til staðar sem hægt er að greina á NGS. Þessar stökkbreytingar eru ekki endilega sértækar fyrir PMF og þeim fylgja yfrleitt verri horfur. Dæmi um slíkar eru ASXL1, EZH2, TET2, SRSF2, IDH1(1/2), SF3B1, o.f. 3,4
Einkenni
Sjúkdómsmynd PMF kemur yfrleitt fram sem blóðleysi, miltisstækkun vegna blóðmyndunar utan beinmergjar sem getur valdið snemmseddu, þenslu á kvið og lystarleysi og almennum einkennum (e. constitutional symptoms) s.s. þyngdartap, slappleiki og nætursviti en einnig þreytu og úthaldsleysi. Hvít blóðkorn og blóðfögur geta verið annað hvort hækkuð (eins og í ET og PV) eða lækkuð Þá geta beinverkir verið til staðar, sem og vöðva- og liðverkir. Á blóðstroki sjást yfrleitt forverafrumur hvítra blóðfruma, dropafrumur (e. teardrop – shaped erythrocytes) og og kyrnd rauð blóðkorn eða svokölluð „leukoerythroblastic picture“. 3,4
Faraldsfræði
PMF er sjaldgæfasti mergofvaxtarsjúkdómurinn með áætlað nýgengi upp á 0,3 á hverja 100 þúsund og algengi um 4-6 á hverja 100 þúsund samkvæmt bandarískum rannsóknum. Evrópskar og norrænar rannsóknir hafa sýnt fram á svipaðar tölur en þó aðeins lægra algengi eða um 2,7 á hverja 100 þúsund.5,6
Greining
Greining á PMF fæst með beinmergsástungu þar sem ýmist má sjá aukið eða minnkað magn blóðfruma á mismunandi þroskastigum (fer eftir því hvenær í sjúkdómsganginum sýnið er tekið), risafrumur/forverafrumur blóðfagna, gjarnan afmyndaðar og í klösum, aukið retikúlín og aukna kollagen myndun þ.e. beinmergstrefun. Greiningarskilmerki fyrir PMF skiptast í meiriháttar greiningarskilmerki og minniháttar skilmerki. Þeim er lýst í töfu 3. Til þess að greining fáist þarf að uppfylla öll þrjú meiriháttar skilmerkin og að minnsta kosti eitt minniháttar. Þar sem einhver hluti einstaklinga með PMF eru ekki með neina þekkta stökkbreytingu þ.e. þríneikvæð er í einhverjum tilfellum ekki öll þrjú meiriháttar skilmerkin uppfyllt en þá er mikilvægt að hin tvö meiriháttar skilmerkin séu uppfyllt.4,7
Meiriháttar skilmerki:
1. Fjölgun afrigðilegra risafruma/forverafruma blóðfagna ásamt auknu retikúlín og aukinni kollagenmyndun
2. JAK2, CALR eða MPL stökkbreytingar til staðar eða aðrir klónal vísar (e. clonal markers)
s.s. ASXL1, EZH2, TET2, SRSF2, SF3B1, IDH (1/2) til staðar eða engin merki um beinmergstrefun sem viðbragð við einhverju öðru (e. reactive fbrosis).
3. Uppfyllir ekki WHO greiningarskilmerki fyrir aðra mergofvaxtarsjúkdóma (ET, PV), CML, MDS eða annarra illkynja mergsjúkdóma
Minniháttar skilmerki:
Blóðleysi án annarrar skýringar
Hvítkornafölgun ≥11 × 109/L
Þreifanleg miltisstækkun
Hækkuð gildi á laktat – dehydrogenasa (LDH) í sermi
Leukoerythroblastic mynd á blóðstroki
Tafa 3: Greiningarskilmerki PMF.
Meðferð og horfur
Við greiningu er gert áhættumat til að meta horfur sjúklinga með sjúkdóminn. Nokkur áhættumatskerf eru til, en það sem helst er notað („Dynamic International Prognostic Scoring system for Myelofbrosis (DIPSS)Plus“) miðast við aldur, hvort almenn einkenni (e. constitutional symptoms) séu til staðar, gildi blóðrauða í blóði, földa hvítra blóðkorna, hvort forverafrumur hvítra blóðkorna séu til staðar í blóði (földi blasta), hvort sjúklingur sé háður blóðgjöfum, hvort blóðfögufæð sé til staðar og litningamynd (e. karyotype).3 Nýlegra áhættumat („Mutation and Karyotype-enhanced International Prognostic Scoring System (MIPSS70)“) tekur einnig til greina stökkbreytingar sem til staðar eru og fnnast með NGS og gráðu trefunar í beinmerg, og er þetta mat sérstaklega hjálplegt fyrir sjúklinga sem gætu undirgengist beinmergsskipti (e. allogeneic hematopoietic stem cell transplant).4
PMF er með verstu horfurnar af mergofvaxtarsjúkdómunum en fmm ára lifun er að meðatali 35 -39%.5 Lifun er verri hjá þeim sem skora hærra á DIPSS-Plus og MIPSS70. Í um 20% tilfella umbreytist PMF í brátt kyrningahvítblæði (e. acute myeloid leukemia) sem hefur verri horfur en þegar það er nýtilkomið (e. de novo acute myeloid leukemia).3
Eina mögulega læknanlega og lífslengjandi meðferðin við PMF er stofnfrumuígræðsla frá gjafa/beinmergsskipti (e. allogenic hematopoietic stem cell transplant). Hins vegar er slík meðferð áhættusöm og fóknari í framkvæmd en við öðrum sjúkdómum t.d. vegna miltisstækkunar og blóðmyndunar

Mynd 1: Sýnir stóra afrigðilegar risafrumur/ forverafrumur blóðfagna (e.megakaryocytes) með „cloudy“ kjörnum.

Mynd 2 : Masson-Trichrome litun. Blái liturinn sýnir byrjandi kollagen myndun sem staðfestir beinmergstrefun.

Mynd 3: Hér má sjá retikúlín litun sem sýnir mikla aukningu á retíkúlín þráðum af gráðu 3.
í öðrum vefum og trefunarinnar sjálfrar í mergnum. Um 15-30% einstaklinga með PMF sem fara í gegnum beinmergsskipti fá alvarlega fylgikvilla í kjölfar ígræðslunnar eða jafnvel deyja vegna alvarlegra sýkinga, tap á graftinum eða vegna hýsilsóttar (e. graft vs host disease). Því er mikilvægt að meta vandlega hvort beinmergsskipti eigi við snemma í sjúkdómsferlinu. Meðferð við PMF hjá þeim sem ekki fara í beinmergsskipti felur í sér stuðnings- og lyfameðferð sem ekki getur aukið lifun eða snúið við sjúkdómsgangi en getur bætt einkenni og lífsgæði og dregið úr framgangi sjúkdóms. Ef einstaklingar eru í lítilli áhættu út frá áhættumati og einkennalausir
er oft engin meðhöndlun til að byrja með nema regluleg eftirfylgd. Fyrir þá sem eru með einkenni eru JAK-2 hemlar (ruxolitinib, fedratinib, momelotinib) fyrstu-línu meðferð, og gagnast sérstaklega ef einkennagefandi miltisstækkun er til staðar eða almenn einkenni s.s. hiti og nætursviti sem fylgja oft PMF. Þessi lyf hafa þó ekki áhrif á náttúrulegan gang sjúkdóms. Athugið að ekki þarf að hafa stökkbreytingu í JAK2 geninu til að hafa gagn af meðferðinni. Önnur meðferð er m.a. reglulegar blóðhlutagjafr og gjöf rauðkornavaka (e. erythropoiesis-stimulating agents).3,4 Í tilfellinu hér að ofan var ekki til staðar einkennagefandi miltisstækkun og tiltölulega lítil einkenni og því ákveðið að hefa ekki strax meðferð með JAK-2 hemlum.
Lokaorð
Af þessu tilfelli má vonandi draga lærdóm af því hvernig alvarlegir og sjaldgæfr sjúkdómar geta komið fram með vægum einkennum. Í þessu tiltekna tilfelli voru margir aðrir þættir sem gátu verið að valda blóðleysi og blóðfögufæð líkt og áhrif af blóðþynnandi lyfum eða blóðfögufæð vegna lyfa sem maðurinn hafði nýlega verið settur á en sjaldgæf en þekkt aukaverkun af blóðftulækkandi lyfnu ezetimibe er einangruð blóðfögufæð. Lyfð hafði verið stöðvað í nokkurn tíma áður en blóðprufur voru teknar en einnig voru aðrar frumulínur afrigðilegar sem samrýmdist því ekki aukaverkun lyfsins. Einnig má draga lærdóm af því að ef einkenni líkt og blæðing sem ekki næst að stöðva eða óútskýrðir marblettir koma fram er ábending fyrir uppvinnslu og ætti að grípa inn í. Því er mikilvægt að vinna blóðleysi og afrigðilegar frumulínur vel upp og ef ekki fást svör með hefðbundnum blóðprufum skal íhuga að taka beinmergssýni.
Tilfelli þetta er ritað og birt með leyf sjúklings.
Heimildir
1. Shantzer, L., Berger, K. & Pu, J.J. Primary myelofbrosis and its targeted therapy. Ann Hematol 96 (4), 531–535 (2017). doi: https:// doi.org/10.1007/s00277-016-2785-9
2. Francesco Passamonti, Barbara Mora. Myelofbrosis. Blood 141 (16), 1954–1970 (2023). doi: https://doi.org/10.1182/ blood.2022017423
3. Guglielmelli P, Lasho TL, Rotunno G, et a.l. MIPSS70: Mutation-Enhanced International Prognostic Score System for TransplantationAge Patients With Primary Myelofbrosis. J Clin Oncol 36(4), 310-318 (2018). doi: 10.1200/JCO.2017.76.4886. Epub 2017 Dec 9. PMID: 29226763.
4. Tefferi A. Primary myelofbrosis: 2023 update on diagnosis, risk-stratifcation, and management. Am J Hematol 98(5), 801-821 (2023). doi: 10.1002/ajh.26857
5. Shallis, R. M., Wang, R., Davidoff, A., Ma, X., Podoltsev, N. A., & Zeidan, A. M. (2020). Epidemiology of the classical myeloproliferative neoplasms: The four corners of an expansive and complex map. Blood reviews, 42. doi: https://doi. org/10.1016/j.blre.2020.100706
6. Moulard, O., Mehta, J., Fryzek, J., Olivares, R., Iqbal, U. and Mesa, R.A. Epidemiology of myelofbrosis, essential thrombocythemia, and polycythemia vera in the European Union. Eur J Haematol 92 (4), 289- 297 (2014). doi: https://doi.org/10.1111/ejh.12256
7. Sonam Prakash, Attilio Orazi, How I Diagnose Primary Myelofbrosis, American Journal of Clinical Pathology 157 (4), 518–530 (2022). doi: https://doi.org/10.1093/ajcp/aqac016


Skjót og fagleg þjónusta þegar þú þarft mest á henni að halda
Sérútbúnar sjúkravélar til og frá íslandi fyrir liggjandi og/eða sitjandi sjúklinga.
Gæði og góð þjónusta alla leið
Fullkominn búnaður um borð
Læknateymi um borð
Áreiðanleiki
Fjöldi flugvéla til taks allan sólarhringinn.
Neyðarnúmer 24/7: 522-0000 - www.airbrokericeland.is
Hvað eiga eftirfarandi skammstafanir sameiginlegt: ALS, ACLS, ATLS, ETC, PALS, EPALS? Þetta eru allt sérhæfð námskeið í viðbrögðum við bráðar aðstæður og eru mikilvægur hluti af grunn- og framhaldsþjálfun margra lækna, bæði hérlendis og erlendis. Að auki eiga þessi námskeið það sameiginlegt að vera að mestu hugsuð fyrir innanspítalaumhverfð. Þau miðast í mörgum tilfellum við að földi fagaðila með mismunandi sérþekkingu sé til staðar og að unnið sé í teymum.
Flest námskeiðin eru þróuð og vottuð af alþjóðlegum samtökum og miða við ákveðin bráðatilvik, svo sem hjartastopp, áverka eða bráð veikindi barna. Sérstaða Íslands er þó sú að landið er strjálbýlt með dreifða byggðakjarna og á landsbyggðinni bera heilsugæslustöðvar oft hitann og þungann af fyrstu meðferð við slysum og bráðum veikindum. Þessar starfsstöðvar eru iðulega mannaðar heimilislæknum eða
afeysingalæknum – og komið getur fyrir að héraðslæknirinn sé einn á vakt án mikils stuðnings. Við slíkar aðstæður er ekki hægt að treysta á fölskipað teymi með fulltrúa frá hverri sérgrein. Þar kemur enginn hjartalæknir, enginn svæfngalæknir og enginn skurðlæknir í útköllin. Landsbyggðarlæknir í einangruðu héraði þarf því ekki einungis þjálfun hugsaða fyrir 10 manna teymi til að sinna sínum sjúklingum, hann þarf verkfærin sem gera honum kleift að greina og meðhöndla sjúklinginn sinn eftir því sem aðstæður bjóða upp á hverju sinni.
Lengi hefur vantað viðeigandi námskeið til að kenna læknum á Íslandi sérhæfð viðbrögð við bráðum veikindum og slysum utan veggja sjúkrahúsa. Þau námskeið sem hafa verið í boði eru fest miðuð við þarfr þeirra sem starfa á stóru sjúkrahúsi og taka oft fyrir afmarkað efni. Námskeiðin eru fölmörg og öll með sína skammstöfun. Lista yfr algengustu námskeið með stuttri útskýringu á hverju þeirra má fnna í Töfu I.
Hvað er BLUS námskeiðið og fyrir hverja?

Hjalti Már Björnsson
Kári Ingason 5. árs læknanemi 2024-2025
Mynd 1: Fjölmörg sérhæfð bráða- og endurlífgunarnámskeið eru í boði og mætti kalla hálfgerða stafasúpu. Skortur hefur verið á námskeiðum sem taka fyrir starfsumhverf landsbyggðarlækna.
BLUS stendur fyrir Bráðalækningar utan sjúkrahúsa og er, ólíkt festum námskeiðunum sem nefnd voru í kafanum hér á undan, ekki innfutt námskeið heldur íslenskt frumkvæði.2 Nytsamlegt getur verið fyrir læknanema að þekkja til þessa námskeiðs ef þeir hafa hug á að starfa á landsbyggðinni, eru áhugasamir um bráðalækningar, landsbyggðarlækningar, eða hyggjast starfa við utanspítalaþjónustu, svo sem vaktir á sjúkrabílum eða mönnun loftfara við sjúkrafutninga. Langt komnir klínískir læknanemar manna margir héruð á landsbyggðinni og sama má segja um sérnámsgrunnslækna og sérnámslækna hinna ýmsu sérgreina. Eftir því sem árin líða frá útskrift úr læknadeild þarf að leggja sig fram, oft að eigin frumkvæði, til að ná sér í nýjustu þekkingu, en nýr búnaður og vitneskja um bestu meðferðir koma fram með reglulegu millibili í bráðalækningum. Ekki er síður mikilvægt að viðhalda eigin getu með reglulegri þjálfun út ferilinn.
Sérfræðingur í bráðalækningum, kennslustjóri bráðalækninga á Landspítala og dósent í bráðalækningum við Háskóla Íslands
BLUS námskeiðið var þróað upp úr aldamótum með það markmið að undirbúa lækna fyrir öll helstu bráðatilvik utan sjúkrahúsa. Má þar nefna sem dæmi endurlífgun, meðhöndlun öndunarvegar, bráða hjartasjúkdóma, meðvitundarskerðingu, fogaveiki, eitranir, áverka, einföld slys og hópslys, viðbrögð við bráðum geðrænum vanda, bráðavanda barna og fæðingar. Námskeiðin eru fyrst og fremst ætluð læknum sem taka bráðavaktir utan sjúkrahúsa, læknum í heilsugæslu á landsbyggðinni og einnig læknum sem starfa á smærri sjúkrahúsum úti á landi þar sem þessi vinna getur verið hluti af starfnu. Þetta eru því læknar sem sinna bráðatilfellum oft í litlum teymum, með takmarkaðan búnað og við aðstæður sem eru farri vel útbúnum bráðamóttökum. Þar sem fest alþjóðleg bráða- og endurlífgunarnámskeið gera ráð fyrir stórum teymum með verkaskiptum hlutverkum, sérhæfðu rými og búnaði, þá tekur BLUS fyrir hvernig læknir skuli bregðast við þegar hann er án mikillar aðstoðar, jafnvel einn og langt getur verið í næsta sjúkrahús.
Saga námskeiðsins
BLUS námskeiðið var haldið í fyrsta sinn vorið 2003. Síðan þá hafa farið fram alls sjö námskeið, síðast haustið 2021. Upphafega voru BLUS námskeiðin þriggja daga staðnámskeið þar sem bæði fræðilegi og verklegi hlutinn rúmaðist innan dagskrárinnar. Fljótlega var ákveðið að lengja þau í fóra daga þar sem dagskráin þótti heldur þétt. Nú stendur til að námskeiðið verði tvískipt: annars vegar vikulangt fræðilegt námskeið þar sem horft er á upptekna fyrirlestra heima fyrir í gegnum vefsíðu námskeiðsins, og hins vegar verklegt námskeið þar sem handtök og samvinna eru æfð á tveimur heilum dögum. Námskeiðið miðast við að læknar séu á vettvangi utan sjúkrahúss og með þann búnað sem er í fullbúnum sjúkrabíl. Þeim er kennt að leysa úr bráðum vandamálum innan þess tímaramma sem tekur að fytja sjúkling inn á sérhæfða stofnun. Í gegnum tíðina hefur verið til vandræða að útvega kennslubúnað fyrir þessa verklegu hlið námskeiðsins. Kennslubúnaður í eigu Háskóla Íslands og Landspítala er til en ekki hefur verið hægt að
Skammstöfun Heiti námskeiðs Lýsing
ALS Advanced Life Support Meðferð bráðveikra með áherslu á endurlífgun eftir hjartastopp. Uppruni: European Resuscitation Council.
ACLS Advanced Cardiac Life Support Bandarísk útgáfa af ALS. Uppruni: American Heart Association.
ATLS Advanced Trauma Life Support Þjálfun í greiningu og fyrstu meðferð slasaðra. N-Amerískt námskeið sem varð til eftir að bæklunarlæknirinn James K. Styner lifði af fugslys með fölskyldu sinni og komst að því að fyrstu meðferð slasaðra var stórlega ábótavant.1
ABLS Advanced Burn Life Support Sérhæft námskeið í meðferð brunasjúklinga –vökvameðferð, öndunarvegur, stigun bruna og futningur. Uppruni: American Burn Association.
BLS Basic Life Support Grunnendurlífgun: hjartahnoð og stuðtæki. Námskeið fyrir almenning og allar heilbrigðisstéttir. Uppruni: European Resuscitation Council.
ETC European Trauma Course
Evrópsk nálgun á áverka með þverfaglegri áherslu. Uppruni: European Resuscitation Council ásamt öðrum evrópskum samtökum bráða- og svæfngalækna.
FCCS Fundamental Critical Care Support Grunnnámskeið í gjörgæslu. Þjálfar heilbrigðisstarfsfólk í umönnun bráðveikra sjúklinga fyrstu 24 klst, á meðan beðið er gjörgæslumeðferðar. Uppruni: Society of Critical Care Medicine.
PALS Pediatric Advanced Life Support Þjálfun í endurlífgun og bráðameðferð barna. Uppruni: American Heart Association.
EPALS European Pediatric Advanced Life Support
Alveg eins og með ATLS og ETC koma PALS og EPALS frá sitthvorri heimsálfunni og eru með ólíkar kennsluaðferðir en með sambærileg hæfniviðmið Gætuð einnig rekist á skammstöfunina APLS sem er svipað og PALS/EPALS en kemur frá Bretlandi.
fá hann lánaðan út úr húsi og að sama skapi hefur kennsluaðstaða verið fullnýtt á þessum stöðum og því verið erftt að halda námskeiðin þar. Einnig hefur reynst mörgum landsbyggðarlæknum erftt að fá sig lausa frá störfum til að sækja nokkurra daga námskeið í höfuðborginni. Horfr nú til betri vegar með kennslubúnað eftir styrk frá Heilbrigðisráðuneytinu sem veittur var í úthlutun til gæða- og nýsköpunarverkefna 2023. Í sömu úthlutun var einnig veittur styrkur til að þróa vefsíðu sem hýsir fyrirlestra námskeiðsins og bætir þannig aðgengi lækna víðs vegar um landið 3
Frá upphaf BLUS hefur verið fylgt þeirri reglu að allir fyrirlesarar og leiðbeinendur haf umtalsverða reynslu af því að starfa við bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa. Umsjón með námskeiðinu hafa Hjalti Már Björnsson bráðalæknir, Viðar Magnússon svæfnga- og gjörgæslulæknir og Steinþór Runólfsson héraðslæknir á Suðurlandi. Einnig taka Bergþór Steinn Jónsson bráðalæknir á Sjúkrahúsi Akureyrar, Unnsteinn Ingi Júlíusson heimilislæknir á Húsavík, og Súsanna Björg Ástvaldsdóttir heimilislæknir og framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Vestfarða, þátt í framleiðslu á efni fyrir fræðilega hluta námskeiðsins. Öll hafa þau mikla reynslu af bráðalækningum og störfum á vettvangi utan sjúkrahúsa.
PHTLS Pre-hospital Trauma Life Support
ILS Immediate Life Support
TÍBA Teymisvinna Í Bráðum Aðstæðum
Fyrir bráðatækna (paramedic), sjúkrafutningamenn (EMT), en líka lækna sem vinna í utanspítalaþjónustu. Fjallar um meðferð áverkasjúklinga á vettvangi áður en sjúkrahúsnálgun tekur við. Uppruni: National Association of EMTs og American College of Surgeons.
Fyrir heilbrigðisstarfsmenn sem taka þátt í fyrstu viðbrögðum við hjartastoppum og bráðum veikindum, t.d. klíníska læknanema. Meiri þjálfun en BLS, minni en ALS. Endurlífgun með grunnatriðum öndunarvegameðferðar og meðferðar bráðveikra sjúklinga. Uppruni: European Resuscitation Council
Íslenskt herminámskeið sem er skylda fyrir alla sérnámsgrunnslækna og sérnámslækna á LSH. Þjálfar teymi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í samskiptum við bráðar aðstæður.
WFR Wilderness First Responder Kennir fyrstu viðbrögð utan hefðbundins heilbrigðiskerfs, t.d. á föllum, í óbyggðum eða við erfð veðurskilyrði þar sem sjúkrafutningar geta tafst.
Tafa 1: Lýsingar á algengustu bráða- og endurlífgunarnámskeiðum
Efni námskeiðsins – Hvað er kennt? Með blöndu fyrirlestra og verklegra æfnga er markmiðið að undirbúa þátttakendur fyrir raunverulegar aðstæður. Í fræðilega hluta námskeiðsins er lögð áhersla á öryggi og búnað á vettvangi: hvernig öryggi skuli tryggt, hvernig sjúklingar eru metnir og forgangsraðað, hvernig björgun og futningur fara fram á vettvangi og hvaða búnað megi búast við að hafa aðgang að í fullbúnum sjúkrabíl.
Fjallað er um grunnatriði öndunarvegarins: rétt viðbrögð við öndunarerfðleikum og mæði, meðferð erfðs öndunarvegar, notkun svæfngalyfa og framkvæmd bráðs barkaskurðar.
Farið er yfr bráðavandamál barna. Þau eru kennd með ABCDE-nálgun og farið er yfr mikilvæg atriði er varða skammtastærðir algengra lyfa og hvernig aðlaga þarf þær ólíkum aldurshópum og þyngdum. Kennd er meðhöndlun alvarlegra veikinda barna, svo sem öndunarerfðleika, blóðþrýstingsfalls og meðvitundarleysis. Einnig er farið í önnur algeng vandamál barna, til dæmis blóðsykursfall, hita og uppköst. Að lokum er kennd endurlífgun barna og nýbura.
Eru hér upptaldir þeir hlutar sem þegar er lokið upptöku á. Stefnt er að upptöku feiri hluta á næstu mánuðum og má þar nefna meðferðir og verklög við geðrof, sjálfsvígshættu og nauðungarvistunum, fæðingum, fogafári, hópslysaviðbragði og ýmsum liðhlaupum og blæðingum.
Að fræðilegum hluta loknum er síðan lögð áhersla á að þátttakendur fái tækifæri til að æfa handtök, takast á við raunsæjar sviðsmyndir og fái endurgjöf í öruggu umhverf.
Framtíð og þróun: Hlutverk BLUS
í íslensku heilbrigðiskerfi Árið 2012 var unnin skýrsla á vegum Velferðarráðuneytisins um endurskipulagningu sjúkrafutninga.4 Hlutverk hópsins var að leggja fram tillögur um framtíðarskipulag sjúkrafutninga á Íslandi. Meðal niðurstaða hópsins var að tryggja þyrfti að læknar sem koma að utanspítalaþjónustu hefðu viðeigandi þjálfun, meðal annars með því að læknar í dreifýli fengju sérstakt námskeið í bráðalækningum. Í skýrslunni segir meðal annars: „Bráðalækningar eru lítill hluti af þeirri þjálfun sem heimilislæknar fá á sínum námsferli og eru bráðar aðstæður þeim oft erfðar og áhyggjuvaldur. Lagt er til að gerð verði krafa um að læknar starfandi við heilsugæslu í dreifýli haf viðeigandi þjálfun til þess að takast á við bráðavandamál og viðhaldi þeirri þjálfun með reglubundnum hætti. Til eru alþjóðlega viðurkennd námskeið í endurlífgun fullorðinna og barna sem og viðbrögðum við slysum sem geta nýst í þessu samhengi. Þá var áður kennt á vegum Endurmenntunar HÍ námskeið í bráðalækningum utan sjúkrahúsa (BLUS) sem miðaðist einmitt við þarfr þessa hóps og tók til allra fyrrgreindra þátta bráðalækninga. Æskilegt væri að svipuðu námskeiði yrði komið á aftur en að öðrum kosti að læknar sæki fyrrgreind alþjóðleg námskeið.“ En er það svo að námskeið eins og BLUS sé sú endurmenntun sem þessi hópur lækna myndi kjósa?
Í rannsókn Ástu Evlalíu Hrafnkelsdóttur sem birt var í Læknablaðinu 20235 var þjálfun landsbyggðarlækna í meðhöndlun slasaðra og bráðveikra metin sérstaklega. Þýði rannsóknarinnar samanstóð af 84 landsbyggðarlæknum (sérfræðilæknum og almennum læknum með minnst 2 ára starfsreynslu eftir kandídatsár, sem starfa að minnsta kosti fórðung ársins utan
höfuðborgarsvæðisins) og alls luku 47 þeirra (56%) við könnunina. Reyndust yfr 90% þátttakenda hafa sótt námskeið í sérhæfðri endurlífgun. Hins vegar höfðu einungis 18% tekið þátt í námskeiði í bráðalækningum utan sjúkrahúsa (BLUS), sem er sérstaklega hannað fyrir þennan markhóp. Í rannsókninni var einnig kannað mat landsbyggðarlækna á eigin hæfni til að framkvæma ýmis inngrip. Í ljós kom að meira en helmingur þátttakenda taldi sig hafa góða þjálfun til að framkvæma 7 af 11 neyðarinngripum sem spurt var um. Þau 11 inngrip sem spurt var um voru: að setja upp beinmergsnál, framkvæma slævingu fyrir inngrip, rétta mjaðma- og axlarliðhlaup, framkvæma barkaþræðingu, nota öndunarvegabúnað ofan raddbanda, veita öndunaraðstoð með belg og grímu, framkvæma bráðaómskoðun, leggja brjóstholsdren, stinga á þrýstiloftbrjóst og að nota hjartastuðtæki.
Meðal niðurstaða var að meirihluti landsbyggðarlækna (55%) taldi sig ekki geta framkvæmt barkaþræðingu af öryggi. Aðeins um 20% töldu sig hafa hæfni til að framkvæma bráðaómskoðun, 28% til að leggja brjóstholsdren og 36% til að stinga á þrýstiloftbrjóst. Yfr helmingur þátttakenda taldi skort á afeysingalæknum helstu hindrun þess að þeir gætu sótt sér endurmenntun. Aðrar mikilvægar niðurstöður rannsóknarinnar voru að meirihluti landsbyggðarlækna telur sig hafa góða þjálfun í bráðaþjónustu almennt, en helst er þörf á að bæta þjálfun í störfum á vettvangi og í sjúkrabíl, í bráðavandamálum barna, fæðingum og bráðum kvensjúkdómum. Einnig kom fram að auka þyrfti aðgengi landsbyggðarlækna að sérhæfðum bráðanámskeiðum. Aðspurðir hvernig þeir myndu helst kjósa að sinna endurmenntun svöruðu afgerandi margir (92%) að þeir
vildu námskeið, en næstfestir hópæfngar hjá heilsugæslu (75%). Þegar spurt var hvað stæði helst í vegi fyrir endurmenntun svöruðu festir (71%) skort á framboði námskeiða og næst festir (55%) skort á afeysingalæknum. Er því vert að velta fyrir sér hvort skortur á þjálfun og endurmenntun lækna til að bregðast við bráðum tilfellum eigi þátt í að erfðlega gengur oft að manna læknastöður á landsbyggðinni.
Þó BLUS haf verið haldið með hléum í rúm 20 ár er mikilvægt að námskeiðið haldi áfram að þróast í takt við breyttar þarfr lækna og framþróun á búnaði og meðferðum. Eins og komið hefur fram stendur nú yfr vinna við að færa hluta námskeiðsins yfr á rafrænt form, þar sem fyrirlestrar námskeiðsins eru teknir upp. Hefur fyrsti hluti efnisins nú verið gerður aðgengilegur öllum læknum á Íslandi.
Markmiðið með að hafa fræðilega kennslu rafræna er að auka aðgengi lækna víðs vegar um landið og stytta þann tíma sem þeir þurfa að vera frá vinnu til að sækja sér endurmenntun. Með því að ljúka fræðilega hlutanum rafrænt er einnig vonast til að læknar fái meira út úr verklega hluta námskeiðsins. Enn sem komið er hefur ekki verið hægt að halda BLUS námskeiðin á landsbyggðinni vegna manneklu og anna, en það er vilji þeirra sem að þeim standa að það verði að raunveruleika með tíð og tíma. Með bættum kennsluaðferðum og nýjum búnaði verður hægt að efa getu lækna til að bregðast við erfðum aðstæðum, draga úr kvíða þeirra sem eru óvanir þeim og auka öryggi sjúklinga – óháð búsetu og aðstæðum.
Vefslóð námskeiðsins er https:// bradalaekningar.is/
Heimildaskrá
1. Styner R. The light of the moon: life, death and the birth of Advanced Trauma Life Support. Seattle, Washington: KDP, Inc; 2007.
2. Læknablaðið. BLUS – námskeið í bráðalækningum utan sjúkrahúsa. Læknablaðið [Internet]. 2004 Apr [cited 2025 Aug 24];90(4). Available from: https:// www.laeknabladid.is/2004/4/umraeda-frettir/nr/1563
3. Heilbrigðisráðuneytið. Yfrlit yfr verkefni gæða- og nýsköpunarstyrkja – úthlutun 2023: tillaga úthlutunarnefndar [Internet]. Reykjavík: Stjórnarráðið; 2023 [cited 2025 Aug 24]. Available from: https://www. stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/
Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Yfrlit%20 yfr%20verkefni%20g%C3%A6%C3%B0a-%20og%20n%C3%BDsk%C3%B6punarstyrkja%C3%BAthlutunar%202023_tillaga%20%C3%BAthlutunarnefndar.pdf
4. Velferðarráðuneytið. Endurskipulagning sjúkrafutninga – Skýrsla verkefnishóps [Internet]. Reykjavík: Stjórnarráðið; 2012 Aug [cited 2025 Aug 24]. Available from: https:// www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti-media/media/rit_2013/bcg-verkefnahopur6-sjukrafutningar-agust2012.pdf
5. Hrafnkelsdottir AE, Bjornsson HM, Oskarsson JP, Runolfsson S. Training of Icelandic rural doctors in managing trauma and acute illness. Laeknabladid. 2023 Jun;109(6):283-290. Iceland.

Jón Magnús Kristjánsson
Sérfræðingur í bráðalækningum, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Á síðustu tíu árum hefur orðið grundvallarbreyting á skipulagi sérnáms lækna á Íslandi. Kandídatsárið var lagt niður og þess í stað tekið upp sérnámsgrunnsár. Ástæðan var fyrst og fremst sú að samræma læknamenntun á Íslandi við það sem tíðkast í Evrópu og á Norðurlöndum, þar sem grunnnámi lýkur við útskrift úr læknadeild en öll starfsþjálfun eftir það telst til framhaldsnáms. Sérnámsgrunnsárið, ólíkt kandídatsárinu, er því fyrsta skrefð í sérfræðinámi, með skýrt skilgreind námsmarkmið og handleiðslu. Hluti af þeim námsmarkmiðum er að læknar kynnist íslenska heilbrigðiskerfnu, hefðum, lögum og reglugerðum og geti unnið sjálfstætt innan þess. Íslenskukunnátta er skilyrði. Með þessu átti að tryggja að íslenskir læknar uppfylli alþjóðlega staðla, fái þjálfun sem er betur gæðastýrð og eigi greiðari aðgang að viðurkenningu menntunar sinnar erlendis. Fyrir ekki svo mörgum árum var eingöngu í boði sérnám í örfáum greinum auk takmarkaðs hlutasérnáms í nokkrum greinum til viðbótar. Þetta hefur þróast yfr í fölbreytt framboð á fullu sérnámi og hlutasérnámi, þar sem alþjóðlegum gæðakröfum er fylgt. Þessi uppbygging er afrakstur markvissrar uppbyggingar hér á landi. Mats- og hæfsnefnd um sérnám lækna hefur séð um að tryggja gæði námsins frá árinu 2015 og staða hennar var styrkt enn frekar með reglugerð nr. 856/2023. Uppbyggingin hér á landi hefur verið hröð og árangursrík. Um 300 læknar stunda nú sérnám á Íslandi, þar af um 100 í heimilislækningum sem er fölmennasta greinin. Sérnámslæknar eru í dag 25–30% af öllum læknum Landspítala og sinna mikilvægu hlutverki í veitingu heilbrigðisþjónustu hér á landi.
Þrátt fyrir þessa uppbyggingu upplifa sérnámslæknar erfðleika við fá inngöngu í sérnám erlendis. Einkum vegna mikilla breytinga sem gerðar hafa verið í Svíþjóð, en þangað hafa íslenskir læknar í gegnum tíðina átt greitt aðgengi að sérnámi. Breytingin
skýrist annars vegar af mikilli samkeppni með auknum földa nýútskrifaðra lækna og hins vegar af breytingum sem hafa átt sér stað í Svíþjóð, sem eru að mörgu leiti sambærilegar þeim breytingum sem orðið hafa á Íslandi. Frá 2021 hefur hefðbundið kandídatsár í Svíþjóð (AT) ekki staðið læknum með erlenda menntun til boða. Sérnámslæknar sem koma frá öðrum löndum til að sérhæfa sig í Svíþjóð hafa farið inn í nýtt kerf og þurft að ráða sig í svokallaðar BT stöður (stytting fyrir bastjänstgöring) en á sama tíma hefur verið í gildi aðlögunartími fyrir þá sem þegar höfðu hafð læknanám í Svíþjóð þegar breytingarnar tóku gildi og eru þeir því enn að ljúka gamla AT náminu. Þetta kann að hafa eitthvað með það að segja hversu fáar BT stöður hafa verið í boði. BT er að lágmarki sex mánuðir en venjulega um eitt ár og inniheldur skipulagt starfsnám í bráðþjónustu, heilsugæslu og öðrum kjarnasviðum. Mismunandi er hvernig BT stöður íslenskir sérnámslæknar í Svíþjóð hafa verið ráðnir í. Sumir hafa þurft að ljúka 12 mánaða BT í sérstakri BT stöðu. Aðrir hafa verið ráðnir á staði þar sem þeir hyggjast síðan stunda sérnám í tiltekinni sérgrein í og í gegnum þá ráðningu verið gert kleift að sýna fram á að þeir uppfylli þau hæfniviðmið sem gerð er krafa um við lok BT, ásamt fullnægjandi sænskukunnáttu og haf skilning á sænsku heilbrigðiskerf. Fyrir íslenska lækna hefur breytingin bæði kosti og áskoranir. Ávinningurinn er að leiðin inn í sérnám er nú formlegri og skýrari, þar sem festir fá ráðningu í samþætt BT/ST stöðu í einu lagi. Þetta einfaldar umsóknarferlið og tryggir að íslensk menntun sé viðurkennd á jafnræðisgrundvelli við sænska. Í upphaf voru tiltölulega fáar BT-stöður í boði (um 140 árið 2021 miðað við áætlaða þörf um 800), en framboðið hefur verið að aukast ár frá ári. Búast má við að samkeppni harðni frá og með 2027 þegar fyrstu útskrifaðir hópar úr nýja sex ára sænska læknanáminu, sem veitir beint starfsleyf, fara sjálfr að sækja um BT en þangað til fara sænskir læknar festir inn í gamla AT námið sem skýrir af hverju ekki eru feiri BT stöður í boði nú. Íslenskir læknar sem hafa áhuga á sérnámi í Svíþjóð þurfa því að sækja um sænskt lækningaleyf, sýna fram á C1 próf í sænsku og sækja um BT eða samþætta BT/ ST stöðu hjá viðkomandi stofnun. Bundnar eru vonir til þess að með vaxandi framboði BT-staða á næstu árum muni aðgengi íslenskra lækna að sérnámi í Svíþjóð aukast verulega að nýju. Þó er mikilvægt að gera sér grein
fyrir því að sænska kerfð leyfr ekki lengur að erlendir læknar fari beint í ST stöður. Skilyrði um að sýna fram á fullnægjandi þekkingu á sænsku heilbrigðiskerf, tungumálinu og að hæfnikröfur BT séu uppfylltar eru ófrávíkjanlegar. Sýna þarf fram á þetta í starf og dugar því ekki að leggja fram gögn. Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki nákvæmar tölur yfr földa þeirra sem eru að sækja um sérnám í Svíþjóð og eru að bíða eftir að komast þar að, hvort sem er beint að loknum sérnámsgrunni eða eftir að hafa lokið hlutasérnámi, en ljóst er að vandinn er til staðar og kallar á aðgerðir.
Ráðuneytið hefur átt samtöl við sænsk stjórnvöld, m.a. sænska heilbrigðisráðherrann og forstjóra Socialstyrelsen, til þess að fá skilning á þýðingu framangreindra breytinga á sænska kerfnu fyrir íslenska lækna, og þar af leiðandi íslenskt heilbrigðiskerf. Svíþjóð hefur verið mikilvægur áfangastaður íslenskra sérnámslækna og því ljóst að breytingar þar hafa áhrif hér. Sem betur fer hefur íslenskt sérnám nú verið eft til muna og margfalt feiri sérnámsstöður eru nú í boði hér á landi heldur en var fyrir nokkrum árum og sama má segja um sérnámsframboðið, sem hefur stóraukist. Heilbrigðisráðherra hefur vakið athygli á málinu á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar með því að leggja til aukið samstarf Norðurlanda varðandi sérnám lækna, og jafnvel gagnkvæma viðurkenningu á fyrsta almenna þjálfunarárinu. Markmiðið er að greiða leið sérnámslækna milli landa og auka gagnkvæma viðurkenningu á hlutum sérnáms.

Sara Hansen Sérnámslæknir í Danmörku
Ég ákvað snemma að verða læknir og eftir stúdentspróf úr Menntaskólanum í Reykjavík, fór ég í læknisfræðinám í bænum Martin í Slóvakíu. Þar lauk ég bachelor-gráðu áður en ég hélt til Danmerkur, þar sem ég lauk náminu í Odense og útskrifaðist í janúar 2021. Í Danmörku dregur hver nýútskrifaður læknir númer sem ræður því hvar maður fær kandídatsstöðu. Þeir sem draga lág númer fá að velja fyrst, og svo koll af kolli. Kandídatsárið er 12 mánaða brú milli námsins og sjálfstæðs starfs sem læknir, og skiptist í 6 mánuði á spítala og 6 mánuði á heilsugæslu. Ég dró hátt númer í úthlutuninni og fékk stöðu í Esbjerg, á skurðdeild og heilsugæslu – og var hæstánægð með valið
Umsóknarferlið og sjö læknahlutverkin Eftir kandídatsárið tók við umsóknarferli í introduktionsstöðu, en allar sérgreinar bjóða upp á námsstöðu í eitt ár sem unglæknir, til að kynnast sérgreininni vel. Áður en maður getur sótt um sérnám í hverju fagi, þarf maður að vera búinn með introduktionsstöðu í þeirri grein. Í rauninni má maður sækja um introduktionsstöðu í öllum þeim 39 sérgreinum sem fnnast í Danmörku. Í Danmörku byggist ferilskráin á svokölluðum sjö læknahlutverkum, þar sem horft er á lækninn sem heild – sérfræðing, samskiptaaðila, leiðtoga, kennara, fagmanneskju og feira.
• Læknir sem sérfræðingur (medical expert)
• Læknir sem samskiptaaðili (communicator)
• Læknir sem samstarfsmaður (collaborator) Læknir sem leiðtogi (leader/manager)
Læknir sem hvatamaður umbóta og þróunar (health advocate)
• Læknir sem fræðimaður (scholar)
• Læknir sem fagmanneskja (professional)
Þetta ferli krefst mikillar sjálfsskoðunar og undirbúnings. Þessi nálgun sýnir manni að starfð snýst ekki aðeins um að vera góður klínískur læknir, heldur líka um að leiða, miðla, kenna og vera hluti af stærra kerf. Umsóknarferlið krefst mikillar sjálfskoðunar. Maður þarf að setja eigin reynslu í samhengi við þessi hlutverk, nefna dæmi úr starf og sýna fram á hvernig maður getur vaxið sem fagmanneskja.
Fyrstu stöðurnar sem læknir – að finna rétta brautina Ég fékk mína fyrstu introduktionsstöðu á kvenna- og fæðingardeild í Esbjerg. Þar fann ég mig virkilega í starfnu og staðfesti áhuga minn á sérgreininni. Síðar prófaði ég einnig introduktionsstöðu í svæfngarlækningum, sem gaf mér dýrmæta reynslu, en ákvörðunin stóð: kvenna- og fæðingalækningar voru mín leið
Sérnámið – langþráður áfangi Þegar komið var að umsókn í sérnám sótti ég aftur um út frá sjö læknahlutverkunum. Hér er mikilvægt að kynna sér hverja sérgrein og umsóknarferlið í þeirri grein vel. Flestar sérfræðigreinar leggja mikið upp úr því að maður sé með reynslu undir öllum 7 læknahlutverkum, og geti þannig sýnt fram á að maður sé góður kandídat inn í sérnámið Ég fékk inngöngu í fögurra ára sérnám í kven- og fæðingalækningum, sem skiptist á milli sjúkrahússins í Esbjerg og háskólasjúkrahússins í Odense. Sérnámið er mjög vel skipulagt, og samanstendur af klínísku starf, vaktavinnu, og skipulagðri fræðslu. Ef allt gengur að óskum, get ég kallað mig kven- og fæðingarlækni eftir rúmlega 2 ár – og aldrei að vita nema ég fytji heim til Íslands til að starfa þar.

Egill Logason
4. árs læknanemi 2024-2025

Róbert Alexander Björnsson
4. árs læknanemi 2024-2025
Einar Stefán Björnsson
Sérfræðingur í lyfækningum og meltingarlækningum á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands
Inngangur
Lifrarpróf eru notuð til að mæla álag á lifrinni og/eða lifrarskaða með amínótransferösum (ASAT og ALAT), alkalískum fosfatasa (ALP) og bilirúbíni. Orðið lifrarpróf getur verið villandi, því þessi próf segja ekki endilega til um starfsemi lifrarinnar heldur gefa þau frekar vísbendingar um hvar skaðinn er í lifrinni. Hækkanir í ASAT og ALAT eru oftast vísbendingar um lifrarfrumuskaða og hækkun í ALP og bilirúbín eru vísbendingar um gallgangaskaða. Oft er þó um að ræða blandaða mynd af bæði skaða eða álagi á bæði lifrarfrumum (e. hepatocytes) og gallgangafrumum (e. cholangiocytes). Til að meta virkni lifrarinnar er nú til dags fyrst og fremst notað International Normalized Ratio (INR) sem mælir K-vítamín háða storkuþætti sem eru framleiddir í lifrinni og er því mælikvarði á framleiðslugetu lifrarinnar.1, 2
Almennt um lifrarpróf Amínótransferasar Í lifrarblóðprufum er sérstök áhersla lögð á að mæla gildi amínótransferasa. Þeir eru tveir, ALAT og ASAT. Annars vegar er ASAT til staðar í lifrinni, hjarta, vöðvum og nýrum. Því er hækkað ASAT ekki sértækt fyrir lifrarskaða því það getur einnig gerst við hjartadrep eða skaða í vöðvum. Hins vegar fnnst ALAT einna helst í lifrarfrumum sem gerir það mikið nákvæmari mælieiningu á lifrarskaða. ALAT hefur því orðið að einu helsta skimunarpróf fyrir bráðan lifrarskaða. Ef þessi gildi fara yfr efri mörk er það einungis vísbending um lifrarskaða en það segir þó ekki til um alvarleika sjúkdóms né um virkni lifrarinnar.3, 4
Alkalískur fosfatasi
ALP er ensím sem fnnst víða í vefum líkamans og gegnir mikilvægu hlutverki í líffræðilegum ferlum, einkum í gallgöngum, beinum, lifur og nýrum. Hækkað gildi ALP í blóði er vísbending um óeðlilegt ástand í lifur, gallgöngum, nýrum eða beinum. Líkt og ASAT er þetta því ekki nákvæm mælieining á lifrarskaða en gefur góða vísbendingu ef hún er pöruð við önnur próf. Í lifrinni er hækkað ALP með mismunandi miklum hækkunum á ASAT og ALAT helsta vísbending um skaða á gallvegum.5
Bilirúbín
Eitt af hlutverkum lifrarinnar er að losa líkamann við bilirúbín, sem kemur frá niðurbroti rauðra blóðkorna, sem lifa í um það bil þrjá mánuði. Til þess þarf að gera bilirúbín vatnsleysanlegt, því bilirúbín sem myndast við niðurbrot hem-hópa er ftuleysanlegt. Orsakir fyrir uppsöfnun bilirúbíns í sermi eru af ýmsu tagi. Á meðal sjúklinga sem eru innlagðir á sjúkrahús er algengasta orsökin fyrir gulu, skilgreind sem tvöföld hækkun á bilirúbíni, krabbamein. Annars vegar vegna stífugulu eða vegna meinvarpa í lifur. Aðrar algengar orsakir eru gallsteinar sem valda stífugulu og sjúklingar hafa oft verki undir hægra rifabarði. Aðrir algengir sjúkdómar sem valda gulu er áfengistengd lifrarbólga (e. alcoholic hepatitis) sem veldur verkjalausri gulu sem einkennist af hækkuðu bílirubíni en lágum gildum af ASAT og ALAT, með ASAT hærra en ALAT og oft töluverð hækkun á ALP. Um er að ræða sjúkdóm sem veldur gulu innan lifrar. Ekki er hægt að greina á milli stífugulu og sjúkdóms innan lifrar með lifrarprófum, heldur þarf að gera ómskoðun til kanna hvort um er að ræða víkkun á gallvegum. Í sjaldgæfum tilfellum getur bilirúbín eitt og sér verið hækkað og algengasta orsökin er Gilberts heilkenni, og er þá um að ræða fyrst og fremst hækkun á ótengdu (e. unconjugated) bilirúbíni, eða að yfr 70% af heildarbilirúbíni er ótengt. Einnig getur í sjaldgæfum tilfellum verið um að ræða rauðkornarof en þá kæmi yfrleitt fram blóðleysi og hækkun á netfrumum í blóði.
Fituleysanlegt bilirúbín er tengt albúmíni í blóði og getur því ekki síast yfr grunnhimnu nýrnagaukla, nema fyrir tilstuðlan gauklasjúkdóma. Ótengt bilirúbín fnnst því aldrei í þvagi. Dökkt þvag myndast hins vegar þegar uppsöfnun verður á tengdu bilirúbíni. Þessi staðreynd er mikilvæg við greiningu á hvaða tegund gulu sjúklingurinn hefur.6
INR
INR er mæling sem segir til um virkni blóðstorkukerfsins, sérstaklega K-vítamínháðu storkuþáttana; X, IX, VII og II. INR getur verið gagnleg mæling til að meta starfsemi lifrarinnar þar sem þessir storkuþættir eru háðir framleiðslugetu lifrarinnar. Hækkun á INR gildi gæti því bent til lifrarbilunar ef lifrin er ekki að framleiða nægt magn af storkupróteinum. Hækkun
á INR er þó ekki sértæk fyrir lifrarbilun, til dæmis getur lyfameðferð með warfaríni eða næringarskortur, sem veldur K-vítamínskorti hækkað INR gildi hjá einstaklingi með eðlilega starfsemi lifrar.1, 2
Gamma GT
Gamma-glútamýl transferasi (GGT) er himnuprótein sem er til staðar í ýmsum tegundum frumna en allra helst í þekjufrumum gallganga. Helsta hlutverk
GGT er að hjálpa við samvægi glútaþíóns og systeins. Styrkur GGT í sermi getur hækkað við ýmsa sjúkdóma utan lifrar og gallvega og er því ósértækt próf. Hins vegar getur hækkun á GGT gefð vísbendingar um suma lifrarsjúkdóma, eins og ftulifur, gallstífu og háþrýsting í lifrarportæð. Eitt og sér gefur GGT mæling ekki miklar upplýsingar en það er hægt að skoða GGT mælingar í tengslum við ALP hækkun til að meta hvort ALP hækkunin sé vegna gallvegasjúkdóms.7, 8
Lifrarpróf Karlar Konur
ALAT (U/L) <70 <45
ASAT (U/L) <45 <35
ALP (U/L) <105 <105
Bilirúbín (µmól/L) 5-25 5-25
INR 0,8-1,2 0,8-1,2
Gamma GT (U/L) <80 <45
Tafa 1: Viðmiðunargildi lifrarprufa á rannsóknarstofu LSH
Greining lifrarskaða með blóðprufum Mikilvægt er að geta skilgreint af hvaða toga lifrarskaði er. Lifrarskaða er hægt að skipta í þrennt út frá staðsetningu skaðans.
• Skaða á lifrarfrumum (e. Hepatocellular) sem einkennist fyrst og fremst af hækkunum á ALAT og ASAT.
• Skaða á gallgöngum (e. Cholestatic) sem myndi frekar einkennast af hækkunum í ALP og GGT með eða án hækkunar á bilirúbíni.
Lifrarfrumu
Offta/ftulifur – Krónískur skaði – Lág gildi á ALAT/ASAT
Áfengi – Krónískur skaði – Lág gildi á ASAT/ALAT
Lyfatengdur lifrarskaði – Bráður skaði – >5 x efri mörk ALAT
Veirusjúkdómar – Bráður og krónískur skaði
Sjálfsónæmislifrarbólgaa – Bráður skaði
Krabbamein – Bráður og krónískur skaði
Blóðþurrð – Bráður skaði
Gallsteinar – Bráður skaði
Gallstífa og Blönduð mynd
Gallsteinar – Bráður skaði
Lyf – Bráður skaði – ALP >2 x efri mörk – Mismunandi ALAT og ASAT
Krabbamein – Bráður og krónískur skaði
Tafa 2: Helstu orsakir mismunandi lifrarprufuhækkana
Svo er til blanda af þessu tvennu (e. mixed) þar sem gildi transamínasa ásamt ALP eru hækkuð. Til að greina á milli þessara tilvika er notað svokallað R-gildi.

R-gildi >5 er skilgreint sem lifrafrumuskaði, <2 er gallgangaskaði, og 2–5 er blönduð mynd af þessu tvennu. Þannig sinna ALAT og ALP mikilvægu hlutverki í greiningu frekar en mati á lifrarskaða.9
Ef það sést lifrarfrumuskaðamynd í blóði þar sem ALAT er hækkað hlutfallslega meira en ALP, R-gildi > 5; ætti uppvinnslan helst að beinast að því að rannsaka sex fokka lifrarsjúkdóma: 9
Áfengislifrarsjúkdómur
• Lifrin umbreytir etanóli í asetat en milliskref í hvörfunum er að mynda asetaldehýð sem er á marga vegu skaðlegt efni.
• Mikil og langvarandi neysla etanóls leiðir til ftulifrar, bandvefsmyndunar í lifur og skorpulifrar.
• Einkennandi blóðprufumynd fyrir áfengislifrarsjúkdóm er ef ASAT gildi er meira en 2x hærra en ALAT gildi.
• Á meðan bæði ALAT og ASAT losna
frá sködduðum lifrarfrumum í blóðrás, veldur áfengissjúkdómurinn einnig aukinni ASAT losun frá hvatberum lifrarfrumna.
• Áfengislifrarsjúkdómur birtist mjög sjaldan með ALAT > 500 U/L
• Ef ekki fæst áreiðanleg saga frá sjúklingi varðandi magn og tímalengd áfengisdrykkju er möguleiki að panta B-PEth mælingu í blóðprufu. B-PEth mæling getur sýnt fram á það hvort sjúklingur haf drukkið mikið áfengi síðastliðinn mánuð eða svo. Þessi blóðprufa er send til útlanda og ætti því að notast sparlega.10,11
Efnaskiptasjúkdómar
• Fitulifrarbólga tengd efnaskiptaójafnvægi (e. Metabolic dysfunction associated steatotic liver disease, MASLD eða steatohepatitis, MASH) sem birtist oftast í tengslum við offtu, sykursýki og blóðfturaskanir.
• Í uppvinnslu er mikilvægt að mæla blóðþrýsting, blóðftur, blóðsykur og HbA1c; og ómun af lifur gæti sýnt ftulifrar útlit.
• Járngeymdarkvilli (e. hemochromatosis) er ekki jafn algengt og MASH en þó mikilvægt að hafa í huga sem orsök hækkaðra lifrarprófa.
• Uppvinnsla með mælingum á ferritíni og járni í sermi, járnbindigetu og járnmettun. Ekki á að mæla ferritin hjá sjúklingum með mikla hækkun á lifrarprófum. Arfgeng járnofleðsla (e. hemochromatosis) er krónískur sjúkdómur og veldur vægum hækkunum á ALAT og ASAT. Hækkun á ferritini er líka algeng hjá sjúklingum með áfengisofnotkun og /eða offtu og ftulifur (e. metabolic hyperferritinemia).
• Wilson’s sjúkdómur er mjög sjaldgæfur sjúkdómur en hann getur valdið lifrarskaða vegna koparofleðslu í lifur Helsta greiningarpróf er mæling á serúlóplasmín en ekki verður fallað meira um Wilson’s sjúkdóminn hér.12,13
Sjálfsónæmislifrarbólga
• Sjálfsónæmislifrarbólga getur oft valdið talsverðri eða mikilli hækkun á ALAT og ASAT (>5-10x efri mörk). Helstu prufur sem styðja greininguna eru: ANA og SMA sjálfsofnæmismótefni
• Hækkun á IgG
• Vefasýni úr lifur ef þörf er á staðfestingu þegar um er að ræða vafatilfelli eða skort á sjálfsofnæmismótefnum og grun um þessa tegund af lifrarbólgu.14
Veirulifrarbólga
• Ýmsar veirur geta lagst á lifrina og valdið þar skaða en í íslensku þýði eru lifrarbólga C og lifrarbólga B (HCV, HBV) algengastar. Lifrarbólga A og E (HAV, HEV) eru ekki landlægir sjúkdómar á Íslandi en þó mikilvægt að hafa þær veirur í huga ef einstaklingur með hækkun á lifrarprófum, hefur nýlega ferðast á svæði þar sem HAV og/eða HEV eru landlægir sjúkdómar. Aðrar veirur eins og CMV, EBV og HSV geta líka valdið lifrarskaða þótt þær séu ekki jafn algengar ástæður og lifrarbólguveirurnar.
• Greining á veirulifrarbólgu felst í því að
gera mælingu á mótefnum gegn þessum veirum. Allra helst eru mæld mótefni gegn HCV og HBV, en sagan og klíníkin ræður nokkru hvort það sé æskilegt að mæla mótefni gegn HAV, HEV, CMV, EBV og HSV.
• HEV er mjög sjaldgæfur sýkingarvaldur í íslensku þýði og það þarf að senda mótefnapróf fyrir HEV til útlanda. Því er ekki æskilegt að mæla þau mótefni í fyrstu lotu af uppvinnslu nema sagan bendi sterklega til HEV sýkingar.15
Blóðfæðissjúkdómar
• Skerðing á blóðfæði til eða frá lifrinni getur valdið miklum lifrarskaða en helstu blóðfæðisraskanirnar til/frá lifrinni eru: Mikill lágþrýstingur eða lost, eins og kæmi í kjölfar sýklasóttar, ofnæmisviðbragða eða hjartastopps.
• Hjartabilun getur verið skaðleg fyrir lifrina þegar hægri hluti hjartans nær ekki að skila frá sér því blóði sem kemur til þess. Þá verður bakfæði blóðs í holæðunum og það myndast stífa í æðakerf lifrarinnar. Budd-Chiari heilkenni, þar sem blóðsegar myndast í lifrarbláæðum eða innan-lifrar hluta holæðar. Blóðsegarnir stífa fráfæði blóðs úr lifrinni og veldur blóðsöfnun í lifrinni, og þar af leiðandi skaða á lifur.16
Lifrarskaði vegna lyfa
• Lifrarskaði vegna lyfa (e. Drug induced liver injury, DILI) er tiltölulega algengt form lifrarskaða sem getur þó verið snúið að greina. DILI er hægt að skipta í fyrirsjáanlegan og ófyrirsjáanlegan skaða. • Fyrirsjáanlegur lifrarskaði er helst af völdum parasetamóls og kemur fram þegar parasetamól er gefð í of miklum skömmtum. Lifrarskaðinn birtist yfrleitt á fyrstu 2 sólarhringunum frá inntöku ofskammtsins.
Ófyrirsjáanlegur lifrarskaði nær til nánast allra annarra lyfa sem geta valdið lifrarskaða. Hér getur lifrarskaði komið fram í nánast öllum skömmtum af lyfum, þ.m.t. hefðbundnum meðferðarskömmtum. Mikill földi lyfa er talinn geta valdið lifrarskaða en sum lyf bera hærri áhættu á DILI en önnur. Sem dæmi eru amoxicillin/klavúlansýra, azathioprin, diclofenac og infiximab þekkt fyrir að hafa nokkra hættu á að valda lifrarskaða.
• Lifrarskaðinn getur komið fram á fyrstu sólarhringunum eftir gjöf lyfanna en getur einnig komið fram nokkrum vikum eftir fyrstu gjöf lyfa.
• DILI er útilokunargreining sem þýðir að það þarf að gera viðunandi uppvinnslu á öðrum mögulegum orsökum lifrarprufuhækkana. Til þess að fá nokkuð sannfærandi líkindi á að lyf sé að valda lifrarskaðanum þarf í það minnsta að fá myndgreiningu af lifur (ómun eða tölvusneiðmynd), mælingu á lifrarbólguveirum: A, B, C CMV, EBV, og eftir atvikum HEV og mælingu á sjálfsmótefnum í tengslum við sjálfsónæmislifrarbólgu (ANA, SMA og IgG) 17,18
Ef það sést gallstífumynd í blóði þar sem ALP er hækkað meira en ALAT og bilirúbín oft hækkað samhliða, þá ætti fyrsta uppvinnsla að miða að því að greina hvort orsök gallstífunnar sé innan lifrar eða utan lifrar. Fyrsta skref í greiningu þess væri með ómskoðun af lifur, gallblöðru og gallvegum.3,4
• Víkkaðir gallgangar á ómskoðun benda til gallstífu.
Gallsteinar í gallgöngum (e. choledocholithiasis) eru algengasta ástæða gallstífu og valda yfrleitt hækkun á ALP og bilirúbíni en stundum líka hækkun á ALAT. Ómskoðun af gallrásum getur í sumum tilfellum ekki staðsett gallsteininn sjálfan og þá væri æskilegt að fá segulómskoðun af gallvegum; Magnetic Resonance
Cholangiopancreatography (MRCP) eða í samráði við meltingarlækni gera bris- og gallgangaspeglun; Endoscopic Retrograde Cholangiopancreatography (ERCP).5,6
• Æxli í gallrás eða brishöfði valda yfrleitt gallstífu með víkkun á gallrásum. Slík æxli gætu greinst á tölvusneiðmynd, MRCP eða ómun.6 Þrengsli í gallgöngum geta valdið
gallstífu og sjást yfrleitt í tengslum við frumkomna trefunargallgangabólgu (e. Primary Sclerosing Cholangitis, PSC) á MRCP myndgreiningu.14
• Eðlilega víðir gallgangar á ómskoðun með hækkun á ALP og bilirúbíni bendir til gallstífu innan lifrar (e. Intrahepatic cholestasis). Slík gallstífa kemur til þegar litlu gallrásirnar innan lifrarinnar eru bólgnar, skemmdar eða stífaðar, eða ef lifrarfrumur geta ekki losað gall frá sér yfr í gallrásirnar.6 Helstu orsakir gallstífu innan lifrar eru:
• Lifrarbólguveirur, sem oftast valda lifrarfrumuskaða en sumar veirur geta líka gefð gallgangaskaða.
• Bólgusjúkdómar eins og frumkomin gallrásarbólga (e. Primary Biliary Cholangitis, PBC) eða sjálfsónæmislifrarbólga. PBC greinist með mælingu á AMA sjálfsmótefni og myndgreiningu eins og ómskoðun eða MRCP. Sjálfsónæmislifrarbólga greinist með mælingum á mótefnunum ANA, SMA og IgG.14
Æxli og meinvörp í lifur geta þrýst á gallrásirnar innan lifrar og valdið stífu. Tölvusneiðmynd væri besta
Vísbendingar um skert blóðfæði til eða frá lifur
ASAT/ALAT >2
Lifrarfrumuskaði R-gildi > 5
Uppvinnsla á hækkuðum lifrarprófum
Gallstífa eða blandaður skaði R-gildi <5
Vísbendingar um efnaskiptasjúkdóm
Sjálfsónæmisprufur ANA (+), SMA (+), IgG (+)
Lifrarbólguprufur HBV (+), HCV (+), (HAV+,HEV+)
Víkkun á gallvegum = gallstífa utan lifrar
Ómun af gallvegum/lifur
Mynd 1: Fyrstu skref í uppvinnslu út frá lifrarprufum
Ekki víkkun á gallvegum = gallstífa innan lifrar
greiningaraðferðin á æxlum í lifur.16
Lifrarskaði vegna lyfa getur haft gallstífumynd í blóðprufum og er útilokunargreining, líkt og við lifrarfrumuskaða. Það mætti íhuga lyf sem orsök gallstífunnar þegar uppvinnsla á öðrum algengum orsökum er neikvæð, sérstaklega þegar myndgreiningarrannsóknir eru neikvæðar.17,18
Lokaorð
Greining og túlkun á lifrarprófum er grundvallarþáttur í klínísku starf og krefst bæði þekkingar á lífeðlisfræði lifrar og innsæis í klínísku samhengi. Rétt túlkun getur fýtt fyrir greiningu alvarlegra sjúkdóma og komið í veg fyrir óþarfa rannsóknir og inngrip. Tilgangur þessarar greinar er að veita innsýn í grunnatriði túlkunar lifrarprófa og falla um algengustu orsakir fyrir hækkunum á lifrarprófum, ásamt því að gefa hugmyndir um fyrstu skref í uppvinnslu. Vonast er til að hún nýtist læknanemum og unglæknum sem hagnýtt verkfæri í daglegu starf.
Við viljum þakka Einari Stefáni Björnssyni prófessor í lyfækningum og meltingarlækni fyrir góða handleiðslu í greinarskrifum og rannsóknum.
Hjartaómun
Lágþrýstingur, lost
Blóðþurrð
Áfengislifrarsjúkdómur Hjartabilun
Hækkað transferrín Hækkað ferritín
Yfrþyngd, sykursýki
Járngeymdarkvilli
Fitulifrarbólga tengd efnaskiptasjúkdómum
Sjálfsónæmislifrarbólga
Veirulifrarbólga
Gallsteinn sést
Gallsteinn sést ekki
MRCP/ERCP
AMA mótefni
Gallsteinn
Frumkomin trefunargallgangabólga
Illkynja fyrirferð
Frumkomin gallrásarbólga
Lifrarbólguprufur HBV (+), HCV (+), (HAV+,HEV+) Veirulifrarbólga
Heimildaskrá
1. Tripodi A, Primignani M, Chantarangkul V, et al. The international normalized ratio calibrated for cirrhosis (INR(liver)). Hepatology. 2007;46(2):520–527.
2. National Center for Biotechnology Information. International Normalized Ratio (INR). NCBI Bookshelf. 2020.
3. Sorbi D, Boynton J, Lindor KD. The ratio of aspartate aminotransferase to alanine aminotransferase: Can it distinguish alcoholic from nonalcoholic liver disease? Am J Gastroenterol. 1999;94(4):1018–1022.
4. Botros M, Sikaris KA. The De Ritis ratio: the test of time. Clin Biochem Rev. 2013;34(3):117–130.
5. Kwo PY, Cohen SM, Lim JK. ACG clinical guideline: evaluation of abnormal liver chemistries. Am J Gastroenterol 2017;112(1):18–35. doi:10.1038/ajg.2016.517.
6. Fargo MV, Grogan SP, Saguil A. Evaluation of jaundice in adults. Am Fam Physician 2017;95(3):164–168.
7. Xing M, Gao M, Li J, Han P, Mei L, Zhao L. Characteristics of peripheral blood gammaglutamyl transferase in different liver diseases. Medicine (Baltimore) 2022;101(1):e28443. doi:10.1097/MD.0000000000028443.
8. Lonardo A, Ballestri S, et al. Gamma-glutamyl transferase—clinical signifcance and interpretation. Med Today Open. 2022.
9. FDA Guidance for Industry: DrugInduced Liver Injury—Premarketing Clinical Evaluation. U.S. Food and Drug Administration; 2009.
10. Gao B, Bataller R. Alcoholic liver disease: Pathogenesis and new therapeutic targets. Gastroenterology. 2011;141(5):1572–1585.
11. Crabb DW, Im GY, Szabo G, Mellinger JL, Lucey MR. Diagnosis and treatment of alcohol-associated liver diseases: 2019 practice guidance from the AASLD. Hepatology. 2020;71(1):306–333.
12. Zoller H, Adams LA, et al. EASL Clinical Practice Guidelines on hereditary haemochromatosis. J Hepatol. 2022.
13. Younossi ZM, Koenig AB, Abdelatif D, Fazel Y, Henry L, Wymer M. Global epidemiology of NAFLD—Meta-analytic assessment. Hepatology. 2016;64(1):73–84.
14. Liberal R, Mieli-Vergani G, Vergani D. Pathogenesis of autoimmune hepatitis. Semin Liver Dis. 2014;34(3):296–305.
15. World Health Organization. Hepatitis B and C: global guidelines. WHO; 2022.
16. Valla D. Budd–Chiari syndrome/hepatic venous outfow tract obstruction. Hepatology. 2009;51(6):1968–1976.
17. Fontana RJ. Pathogenesis of idiosyncratic drug-induced liver injury and clinical perspectives. Gastroenterology. 2014;146(4):914–928.
18. Björnsson E, Hoofnagle JH. Categorization of drugs implicated in causing liver injury: Critical assessment based on published case reports. Hepatology. 2016;63(2):590–603.



Grunnþættir í augnvandamála,uppvinnslu með sérstaka áherslu á praktísk atriði við algeng vandamál sem koma fyrir á heilsugæslustöðvum og bráðamóttökum án umfangsmikils sérhæfðs búnaðar.
Saga einkenna og sjónbreytinga Við sögutöku sjúklinga með sjónbreytingar ber að leggja sérstaka áherslu á þrjú lykilatriði: tímaás einkenna, eðli sjónbreytingarinnar og tilvist sársauka eða óþæginda. Tímaásinn gefur mikilvægar vísbendingar um hvort um brátt eða langvinnt ferli sé að ræða. Eðli sjónbreytingarinnar skal lýsa nákvæmlega, hvort hún birtist sem móða, földi fyksa eða punktar sem fylgja augnhreyfngum, og hvort breytingin sé til staðar á öðru eða báðum augum. Enn fremur skiptir máli hvort einkenni séu sársaukalaus eða hvort þeim fylgi verkir. Til dæmis er sjónhimnulos yfrleitt án verkja, á meðan lithimnubólga einkennist af stöðugum sársauka sem versnar í birtu, einkum vegna örvunar á sjáaldursvöðva. Þessir eiginleikar hjálpa mikið við mat á orsök sjóntrufunar. 1,6 Við frekari sögutöku er mikilvægt að kanna fyrri augnsögu sjúklings, þar með talið augnaðgerðir, notkun linsa og nýlegar lyfagjafr í augað, þar sem slíkar upplýsingar geta haft afgerandi áhrif á lokagreiningu.1,6
Sjónpróf
Sjónskerpa er metin með Snellen-töfu (Mynd 1), þar sem prófað er eitt auga í einu; með gleraugum eða linsum ef sjúklingur notar þau til annars en lesturs. Til að minnka áhrif ljósbrots frá fremri hluta augans er einnig hægt að láta sjúkling horfa í gegnum þröngt ljósop (e. pinhole) til að minnka geisladreifngu (Mynd 2). Ef sjón batnar marktækt við notkun þröngs ljósops bendir það til þess að sjónskerðingin staf af trufun í fremri hluta augans, til dæmis við sjúkdóm í hornhimnunni eða augasteininum. Hins vegar ef engin breyting verður er hugsanlegt að orsökin sé í aftari hluta augans, svo sem í glerhlaupinu eða sjónhimnunni.1,6 Sjónmæling er skráð sem hlutfall þeirrar línu sem sjúklingur nær að lesa og farlægðarinnar sem mælingin er framkvæmd. Til dæmis, ef sjúklingur les staf í stærð þrjú úr sex metra farlægð, er niðurstaðan skráð sem 3/6, sem er síðan gjarnan umreiknað í 0,5.6
Egill Ívarsson 5. árs læknanemi 2024-2025
1
Gunnar Már Zoega
Sérfræðingur í augnlækningum og lektor við Háskóla Íslands
Ragnheiður R. Vernharðsdóttir Sérnámslæknir í augnlækningum 20/70 3
4
Mynd 1: Snellan tafa


Mynd 2: Virkni þröngs ljósops
Augnþrýstingur
Til eru margar aðferðir til að mæla augnþrýsting. Sú algengasta er spennumælir sem nýtir pinna sem snertir hornhimnuna í augnablik og mælir mótþrýsting augans.1 Mikilvægt er að tryggja að pinninn sé eins láréttur og unnt er til að fá ekki falskt lágt/hátt gildi.6 Þessi mæling er afar mikilvæg og ætti ekki að sleppa henni, sérstaklega þegar grunur vaknar um bráðagláku eða þegar hætta er á rof augans, svo sem við mat á aðskotahlut eða nýlega sögu um aðskotahlut í auga.1,3
Augnhreyfingar
Við mat á virkni augnvöðva er sjúklingur látinn fylgja fngri með augunum í allar áttir með tilliti til mismunandi hreyfskerðingar eða augntin (e. nystagmus). Mikilvægt er að spyrja sjúkling um tvísýni eða verki við hverja átt sem er hreyft. Þessi athugun er meðal annars notuð til að meta ástand augnvöðva við höfuðkúpubrot, lömun á heilataugum og vöðvasjúkdóma, líkt og í vöðvaslensfári (e. Myasthenia Gravis).1
Ljósviðbrögð Við mat á ljósviðbrögðum er verið að meta starfsemi sjáaldursvöðvans, sjónhimnu og sjónbrautar miðtaugakerfsins allt í einu.
Ljósi er þá beint í annað augað; án þess að lýsa í hitt. Við eðlileg viðbrögð dragast bæði sjáöldur saman samtímis, þar sem ljósáreitið í öðru auganu örvar bæði beint og óbeint ljósviðbragð. Ef samdráttur sjáaldra er ekki sýnilegur, eða einungis sýnilegur í öðru auganu, bendir það til trufunar í einu eða feiri fyrrnefndra kerfa.1,6
Ytra auga
Við mat á ytra byrði augans skal fyrst meta og lýsa ytri og innri hluta augnlokanna. Skoða hvort er að fnna bólgu, þykkildi, sár eða gröft, svo dæmi séu nefnd. Algengt er að greina hvarmabólgu (Mynd 3), vogris eða innsnúin augnhár (Mynd 4) sem hjálpar við mat á grunnorsök óþæginda, til dæmis í augnþurrki og ertingu hornhimnu. Í kjölfarið er hvítan skoðuð með áherslu á lík atriði. Roði, þykkildi, aðskotahlutir og feira. Mikilvægt er að lýsa mynstri og dreifngu roðans, þar sem það getur veitt mikilvægar vísbendingar um undirliggjandi orsök. Til dæmis er afmarkaður roði á hluta hvítunnar; sérstaklega hliðlægur roði, oft merki um grunna hvítuhýðisbólgu (e. episcleritis) (Mynd 5), sem er góðkynja ástand og þarfnast ekki sýklalyfa. Hins vegar getur dreifður roði umhverfs glærubrú (e. limbus) verið merki um alvarlegri sjúkdóma (Mynd 6), svo sem lithimnubólgu, byrjandi bráðagláku, sýkingu í hornhimnu eða byrjandi innri sýkingu augans sem þarfnast ávallt bráðs mats augnlæknis. Hins vegar getur vægur roði umhverfs glærubrú einnig myndast við langvarandi linsunotkun með eða án sýkingar, sem ýtir undir mikilvægi sögutöku.1,6 Ítarlegri umföllun um orsakir rauðs auga og meðferð þeirra eru utan ramma þessarar greinar, en lesendum er ráðlagt að kynna sér nánari umföllun í fyrri grein í Læknanemanum.4




Raufarlampaskoðun (e. Slit lamp exam) Til að meta hornhimnu, fremri- og aftari hluta augans að fullu er mikilvægt að nota raufarlampa til að fá viðeigandi stækkun til að greina smáatriði sem geta verið einkennandi. Hæð ljósgeislans er stillt efst á lampanum (sjá: rauður hringur á Mynd 7) og breidd hans neðst (sjá: grænn hringur á Mynd 7). Við skoðun í lampanum er litið á alla hluta augans aftur, í þetta sinn með aukna áherslu á athugaverð atriði frá fyrri hlutum sögutöku og skoðunar. Ef sjúklingur er einungis með einkenni frá öðru auganu er oft gagnlegt að skoða fyrst augað sem er án einkenna til að fá beinan samanburð við einkennagefandi augað 1,5
Algengt vandamál á heilsugæslum og bráðamóttökum eru sár á hornhimnu eftir aðskotahlut. Sum sár á hornhimnu sjást með berum augum, séstaklega ef aðskotahlutur er enn í auganu en fest sár krefast fúrlitunar til að greina grunnar þekjuskemmdir á hornhimnunni. Blátt ljós sem virkjar fúrín litinn fæst með því að snúa sama takka og þeim sem stillir hæð ljósgeislans rangsælis. Ef um er að ræða aðskotahlut sem festist í hornhimnunni getur verið gott að meta hvort er að sjá leka frá sárinu með Seidel próf. Prófð er framkvæmt með fúrlitun, þar sem fylgst er með hvort vökvi leki frá sárinu sem skolar fúrlitinn í burtu og veldur þá minni





upptöku í línu neðan við sárið (Mynd 9). Ef leki sést er það merki um rof og þá þarf ávallt að fá bráðamat augnlæknis.1,3,6 Þegar er búið að líta á hornhimnuna og önnur athugaverð atriði í kring er gott að hliðra geislanum til að fá krosssnið af fremri hluta augans (Mynd 8). Þá má sjá hornhimnuna fremst og aftan við hana er vökvafyllt forhólfð, sem undir eðlilegum kringumstæðum lítur út eins og „tómarúm.“ Því næst skellur ljósgeislinn á lithimnuna (e. iris), með hringlaga sjáaldur fyrir miðju þ.e. sjáaldrið, en í gegnum það má síðan sjá þversnið linsu aftast. Ávallt skal meta hvern strúktúr að fullu fyrir fullnægandi skoðun.6 Mikilvægt er að meta hvort frumur sjáist í forhólf með þröngum og sterkum ljósgeisla (Mynd 11). Helst í hárri stækkun, þ.e. x16–x40, til að greina einstakar frumur sem auðvelt er að missa af.6 Grænt ljós getur síðan hjálpað við aðgreiningu hvít- og rauðkorna til að greina á milli blæðingar eða bólgu þar sem að rauðar frumur hverfa í grænu ljósi. Á linsunni er síðan hægt að meta til dæmis fyrri skemmdir eftir lithimnubólgu þar sem myndast höft (e. synechia) (Mynd 10) eða hvort ský sé byrjað að myndast í augasteini (e. cataract), sem gæti orsakað sjónskerðingu eða trufað mat á sjónhimnu.1
Sjónhimnuskoðun
Til að meta sjónhimnu er ýmist hægt að nota raufarlampa og 90D-linsu eða augnsjá (e. ophthalmoscope) og 20D-linsu. Sjóntaug og augnbotn er iðulega unnt að meta án víkkunar sjáaldurs, en til að skoða jaðarhluta sjónhimnunnar er oft nauðsynlegt að nota víkkandi augndropa, til dæmis fenýlefrín með 2–4 klukkustunda verkun og/eða trópikamíð með 6–10 klukkustunda verkun.1
Til að skoða sjóntaug er sjúklingur beðinn um að líta aðeins til hliðar á því auga sem skoðað er. Til dæmis, þegar hægra auga er skoðað er gott að láta sjúkling horfa á hægra eyra skoðanda, sem situr á móti sjúklingi, en þá ætti innsýn að lenda beint á sjóntaug og hægt að færa sig að augnbotni frá henni. Að lokum er sjúklingurinn beðinn um að líta í allar áttir til að meta jaðarhluta sjónhimnunnar og greina möguleg merki um glerhlaupslos, sjónhimnulos, blæðingar eða aðra sjúkdóma í afturhólf augans.6
Frekara ítarefni
Þeir sem vilja kynna sér frekari efni um augnskoðun og augnlækningar eru hvattir til að lesa nýlega grein í Læknablaðinu um augnskoðun,2 sem fallar um fóknari rannsóknir og fræðileg atriði augnskoðunar. Einnig er hægt að skoða kennslubókina OphthoBook sem er aðgengileg endurgjaldslaust á netinu, hún veitir aðgengilega og myndræna yfrferð um helstu atriði í augnlæknisfræði.6
Heimildir og ítarefni
1. Allen RC, Harper RA. Basic Ophthalmology: Essentials for Medical Students: American Academy of Ophthalmology; 2016.
2. Auður Kristín Pétursdóttir, María Soffía Gottfreðsdóttir. Augnskoðun. Læknablaðið 2025(111):432-3.
3. Gardiner MF. Approach to diagnosis and initial treatment of eye injuries in the emergency department. 2023 [Sótt 14/10/25]. In: UpToDate. Wolters Kluwer. Sótt af: https:// www.uptodate.com/contents/approachto-diagnosis-and-initial-treatment-of-eyeinjuries-in-the-emergency-department.
4. Jóhannes Kári Kristinsson. Sex bestu leiðir til að meðhöndla rauð augu rangt. Læknaneminn. 2022(73):56-7.
5. Knoop KJ. Slit lamp examination. 2024 [Sótt 14/10/25]. In: UpToDate [Internet]. Wolters Kluwer. Sótt af: https://www.uptodate.com/ contents/slit-lamp-examination.
6. Root T. OphthoBook: CreateSpace Independent Publishing Platform; 2009.
Myndir
Mynd 3: Clubtable, Wikimedia commons, Blepharitis, 2.maí 2012 [Sótt 8/03/26],https:// commons.wikimedia.org/wiki/File:Blepharitis.JPG (Klippt)
Mynd 4: “Temporal corneal scarring due to trichiasis in trachoma.” eftir Community Eye Health, CC BY-NC 2.0, 19.02.2013, [Sótt 8/03/26], https://www.fickr.com/photos/ communityeyehealth/8488019819/in/ photostream/
Mynd 5: Asagan, Wikimedia commons, Episcleritiseye, 20.ágúst 2013 [Sótt 8/03/26], https://commons.wikimedia.org/wiki/ File:Episcleritiseye.jpg (Klippt)
Mynd 6: Gagnabanki LSH, nafnlaust. Mynd 8: Gagnabanki LSH, nafnlaust. Mynd 9: Gagnabanki LSH, nafnlaust. Mynd 10: Gagnabanki LSH, nafnlaust.
Mynd 11: Kjell Sandvig, Store norske leksikon, Uveitt, 24. febrúar 2025 [Sótt 8/03/26], https:// sml.snl.no/uveitt

Margir þekkja einhvern sem er með gláku, en hvað þýðir sú sjúkdómsgreining? Gláka er í raun fokkur margra sjúkdóma sem hafa það sameiginlegt að hrörnun og skemmdir verða í sjóntauginni. Þessar skemmdir einkennast af fækkun taugafrumna í sjónhimnunni (e. retinal ganglion cells) og taugasímum. Með þessari hrörnun á taugavef stækkar svokallaður sjóntaugarbolli og með áframhaldandi hrörnun verður sjóntaugin alveg hol að innan. Þá er talað um “cupping” og sjóntaugabollinn þá metinn og mældur. Talið er að taugaskemmdirnar verði fyrst í sjóntaugarósnum (e. lamina cribrosa), en rannsóknir hafa sýnt skemmdir í sjóntaugarósnum hjá glákusjúklingum. Sjónsviðsskerðing er helsta einkenni gláku en sjóntapið er af völdum taugaskemmdanna og er óafturkræft.1
Orsakir gláku eru ekki að fullu þekktar en talið er að þær séu margþættar. Fundist hafa stökkbreytingar sem tengja má við gláku en umhverfsþættir skipta einnig máli.1
Líffærafræði augans Forhólf augans er afmarkað af hornhimnunni að framan og lithimnunni að aftan. Á mótum hornhimnunnar og lithimnunnar er litu- og glæruhornið (e. Iridocorneal angle) en í því er að fnna fmm byggingarhluta, brárkleggi (e. ciliary body band), augnhvítuspora (e. scleral spur), síuna (e. trabecular meshwork), Schlemm’s göngin (e. Sclemm’s canal) og Schwalbe’s línuna (e. Schwalbe’s line). Inni í forhólfnu er augnvökvi (e. aqueous humor), en þessi vökvi nærir augað og heldur forhólfnu formuðu. Stöðug framleiðsla er á augnvökvanum í brárþekjunni (ciliary epithelium) í afturhólf augans (e. posterior chamber). Vökvinn fyst síðann í forhólfð í gegnum ljósopið (e. pupil), en síast síðan út úr auganu í gegnum síuna og að lokum út í Schlemm’s göngin, en þessir byggingarhlutar eru staðsettir í litu- og glæruhorninu.1, 3, 4 Sían er hringlaga svampkenndur stoðvefur sem er þakinn frumum sem kallast síufrumur (e. trabeculocytes). Síufrumurnar geta dregist saman og geta þannig stjórnað útfæði augnvökvans. Schlemm’s göngin liggja síðan í kringum síuna og starfar sem safngangur. Í gláku falla Schlemm’s göngin saman og virka því ekki sem skyldi. Úr Schlemm’s göngunum fyst augnvökvinn síðan úr auganu um safnrásir (e. collector channels) sem sameinast bláæðakerfnu.1
Katla Björg Jónsdóttir
5. árs læknanemi 2024-2025
María Soffía Gottfreðsdóttir Sérfræðingur í augnlækningum og lektor við Háskóla Íslands
Augnþrýstingur
(e. Intraocular pressure)
Hækkaður augnþrýstingur er einn helsti áhættuþátturinn fyrir myndun gláku. Augnþrýstingur augans heldur því formuðu þar sem augað er fullt af augnvökva eins og áður hefur komið fram. Til þess að augnþrýstingur haldist stöðugur þarf að vera jafnvægi milli innfæðis og útfæðis augnvökva. Augnþrýstingur í heilbrigðu auga

er yfrleitt 15-16 mmHg +/- 3 mmHg, en í klínískum tilgangi er miðað við að hann sé undir 21 mmHg. Þrátt fyrir að einstaklingur sé með hækkaðan augnþrýsting er það ekki alltaf merki um augnsjúkdóm. Misjafnt er eftir einstaklingum hversu háan augnþrýsting augað þolir, en eina sannaða meðferðin til að hindra eða hægja á glákuskemmdum er lækkun á augnþrýstingi.1, 4, 6

Mynd 1: Augnbotnamyndir. Vinstra megin sést í eðlilega sjóntaug en hægra megin sjást skemmdir á sjóntaugabollanum, þ.e. “cupping” 2
Augnsía
Síugangur
Brárkleggi


Augasteinn
Augnvökvaflæði




Mynd 2: Líffærafræði augans. Örvarnar sýna fæði augnvökva frá brárþekjunni, í forhólfð og inn í síuna.5
Eina leiðin til að greina gláku er að skoða augað sjálft. Augnþrýstingsmæling er ekki greinandi fyrir gláku. Í augnskoðun er augnþrýstingur hins vegar mikilvægur og er hann mældur, litu- og glæruhornið er skoðað með tilliti til hvort það sé opið með sérstakri linsu (e. gonioscopy), leitað er að skemmdum á sjóntauginni, sjónsvið mælt og teknar eru myndir af sjóntauginni svo hægt sé að bera myndirnar saman með tímanum.7
Tegundir gláku
Gláku er yfrleitt skipt í tvo meginfokka, gleiðhornsgláku (e. open angle glaucoma) og þrönghornsgláku (e. angle closure glaucoma). Til eru ítarlegri fokkunarkerf sem taka þá inn í myndina undirliggjandi sjúkdómsástand sem veldur breytingu á jafnvægi innfæðis og útfæðis augnvökvans. Þar er hægt að nefna meðfædda gláku sem getur myndast á fósturstigi eða á fyrstu 2 árum barnsins, gláku í tengslum við aðra sjúkdóma og gláku eftir slys eða áverka. Hér verður aðeins farið yfr gleiðhornsgláku og þrönghornsgláku.7, 8 Gleiðhornsgláka er algengasta tegund gláku og koma einkenni hægt og bítandi fram á nokkrum árum. Yfrleitt er ástæðan skerðing á fæði augnvökva sem leiðir til augnþrýstingshækkunar sem talið er að leiði að lokum til skaða á sjóntauginni. Helstu viðvörunarmerki gláku eru blindir punktar í jaðri sjónsviðs, en yfrleitt tekur fólk ekki eftir sjónsviðsbreytingum fyrr en þær eru orðnar alvarlegar. Þess vegna er reglubundið eftirlit hjá augnlækni mikilvægt ef einstaklingur er í áhættu fyrir gláku.7
Þrönghornsgláka eða bráðagláka er ástand þegar lithimnan færist að fráfæðishorninu í forhólf augans, þrengir að síuvefnum og minnkar þannig útfæði augnvökvans úr auganu. Þetta leiðir til mikillar hækkunar á augnþrýstingi á stuttum tíma. Þetta er brátt ástand og krefst því meðferðar strax þar sem það getur leitt til blindu á stuttum tíma. Helstu einkenni bráðagláku er móðusjón, mikill verkur í auga, höfuðverkur, ógleði, uppköst og jafnvel sér fólk áru (e. halo) þegar það horfr
í ljós. Til er krónísk þrönghornsgláka en þá koma einkenni hægar fram og eru skemmdir yfrleitt orðnar alvarlegar áður en brugðist er við 7
Lágþrýstingsgláka (e. normal tension glaucoma) er gláka þar sem augnþrýstingurinn er ekki hækkaður, en þó er að fnna glákuskemmdir á sjóntaug.7
Áhættuþættir gláku
Einstaklingar með hækkaðan augnþrýsting eru taldir í aukinni áhættu fyrir að þróa með sér gláku. Þessir einstaklingar ættu að vera í eftirliti hjá augnlækni þar sem fylgst er með útliti sjóntaugar og sjónsvið mælt reglulega. Að auki getur farsýni, saga um áverka á auga, langtíma steranotkun, þunnar hornhimnur, sykursýki, mígreni, hár blóðþrýstingur auk feiri þátta aukið áhættuna á að þróa með sér gláku.7
Meðferðarmöguleikar
Lækning er ekki til við gláku, en sjúkdómurinn er krónískur og framsækinn. Lyf, lasermeðferðir og skurðaðgerðir hægja á framgangi sjúkdómsins. Yfrleitt er fyrsta meðferð við gláku lyfameðferð og þá með augndropum. Glákudropana þarf að nota daglega og lækka þeir augnþrýstinginn með því að minnka myndun augnvökva eða auka útfæði augnvökvans úr auganu. Dæmi um dropa sem auka útfæði augnvökva eru prostaglandin afeiður, t.d. latanoprost, Rho kínasa hemlar, nituroxíð og kólínerg lyf, eins og pílókarpín. Dropar sem minnka myndun augnvökva eru alfa adrenergir örvar, t.d. apraklónidín og brímonidín tartrat, beta blokkar, t.d. tímólól, og kolsýruanhýdrasa hemlar, eins og dorzólamíð og brínzólamíð 7, 9 Þrjár megin laser aðgerðir eru gerðar við gláku. Þær kallast síuviðgerð (e. trabeculoplasty), lithimnugötun (e. iridotomy) og brárkleggseyðing (e. cyclodestruction). Þessar aðgerðir eru gerðar til að auka útfæði augnvökva úr auganu eða til að minnka framleiðslu. Síuviðgerð, (e. selective laser trabeculoplasty, SLT) er gerð við
gleiðhornsgláku en iridotomy með Yag laser við bráðagláku.7 Í alvarlegri gláku sem ekki hefur látið undan annarri meðferð er notaður Diode laser eða Cryo (frysting) meðferð sem skemmir hluta brárkleggis (e. corpus ciliaris) og minnkar þannig vökvaframleiðsluna.10 Skurðaðgerðir við gláku eru margar og eru að verða algengari meðferðarmöguleiki. Margar nýjar skurðaðgerðir hafa verið þróaðar á síðustu árum og miða þær að því að fækka ífarandi inngripum í augnvefnn. Flokkur þessarra aðgerða kallast láginngripsglákuaðgerðir eða MIGS (e. minimally invasive glaucoma surgery). Þessar skurðaðgerðir mynda nýtt fráfæði augnvökva og er það annað hvort gert með því að búa til nýjar rásir í auganu sjálfu eða með því að græða ígræði í augun sem hjálpa til við síun augnvökva úr auganu. Eitt þessarra ígræða er svokallað iStent sem er komið fyrir í Schlemm’s göngin. IStent er minnsta ígræði sem grætt hefur verið í mannslíkamann. Þessar aðgerðir byggja á því að gripið sé inn í sjúkdóminn áður en miklar óafturkræfar skemmdir verða. Í langt genginni gláku þarf að beita stærri aðgerðum, til dæmis, hjáveituaðgerðum þar sem gerður er fstill með demantsskurði eða að stórum rörum (e. glaucoma drainage device) er komið fyrir í augað. Mikilvægt er að beita snemmtækri íhlutun ef sjúkdómurinn lætur ekki undan hefðbundinni lyfameðferð.7, 11
Niðurlag
Gláka er fokkur sjúkdóma sem einkennist af hrörnun á sjóntaug. Orsök sjúkdómsins er ekki þekkt að fullu, en meðferðir sem lækka augnþrýsting skila árangri. Jafnvægi í framleiðslu og útfæði augnvökva skiptir því miklu máli og er nú til földi meðferða sem hafa áhrif á þá þætti. Augndropar hafa verið undirstaða meðferðar í földa ára en skurðaðgerðir eru nú að verða betri og öruggari meðferðarmöguleiki.
Heimildir
1. American Academy Of Ophthalmology. 2020-2021 Basic and Clinical Science Course (Bcsc), Complete Set. S.L.: Amer Academy Of Ophthalmology, 2020.
2. Glaucoma Associates of Texas. “Glaucoma Tests and Diagnosis,” n.d. https://www. glaucomaassociates.com/glaucoma-testsand-diagnosis/.
3. American Academy of Ophthalmology. “Aqueous Humor.” American Academy of Ophthalmology, January 28, 2019. https://www.aao.org/eye-health/anatomy/ aqueous-humor.
4. Jóhannesson, Gauti. “Intraocular Pressure : Clinical Aspects and New Measurement Methods.” DIVA. Umeå universitet, 2024. https://umu.diva-portal.org/smash/record. jsf?pid=diva2%3A399503&dswid=104
5. Kwon, Young H., John H. Fingert, and Emily Greenlee. “Ch 3 the Glaucoma Eye. A Patient’s Guide to Glaucoma.” eyerounds.org, n.d. https://eyerounds.org/books/glaucoma_ guide/chapter3.html#gsc.tab=0.
6. “European Glaucoma Society Terminology and Guidelines for Glaucoma, 5th Edition.” British Journal of Ophthalmology 105, no. Suppl 1 (June 2021): 1–169. https://doi.org/10.1136/ bjophthalmol-2021-egsguidelines.
7. Boyd, Kierstan. “What Is Glaucoma?” American Academy of Ophthalmology, October 29, 2024. https://www.aao.org/eyehealth/diseases/what-is-glaucoma.
8. R Rand Allingham, Karim F Damji, and M Bruce Shields. Shields Textbook of Glaucoma. Lww, 2012.
9. National Eye Institute. “Glaucoma Medicines | National Eye Institute.” www.nei.nih.gov, July 19, 2021. https://www.nei.nih.gov/ learn-about-eye-health/eye-conditions-anddiseases/glaucoma/glaucoma-medicines.
10. Gross, Andrew , Sahil Aggarwal, and Divakar Gupta. “Cyclodestructive Procedures: Types and Techniques.” American Academy of Ophthalmology, May 1, 2022. https://www. aao.org/eyenet/article/cyclodestructiveprocedures-types-and-techniques.
11. Gurnani, Bharat, and Koushik Tripathy. “Minimally Invasive Glaucoma Surgery.” PubMed. Treasure Island (FL): StatPearls Publishing, 2022. https://www.ncbi.nlm.nih. gov/books/NBK582156/.

þær bestu sem völ er á

Hægt að sérpanta ýmsa liti, áletrun og varahluti www.magnusheilsuvorur.is/
Ár hvert veitir Félag læknanema viðurkenningar til þeirra sem hafa skarað fram úr við kennslu, leiðsögn og móttöku læknanema.
Kennslu-, deildarlækna- og heiðursverðlaun fyrir skólaárið 20242025 voru afent síðasta haust og hlutu eftirfarandi einstaklingar verðlaun.



Kennsluverðlaun 2024-2025
Kennsluverðlaun hlaut Ari Jón Arason, aðjúnkt við læknadeild. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi viðleitni og áhuga við kennslu læknanema í verklegri vefafræði.
Deildarlæknaverðlaun 2024-2025
Deildarlæknaverðlaun hlaut Hafþór Ingi Ragnarsson, sérnámslæknir í skurðlækningum. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi metnað, frumkvæði og áhuga við kennslu læknanema en jafnframt fyrir einstaklega jákvætt viðmót í garð þeirra.
Heiðursverðlaun 2024-2025
Heiðursverðlaun hlaut Þórarinn Guðjónsson, prófessor og fráfarandi forseti Læknadeildar. Verðlaunin eru veitt fyrir einstaklega gott viðmót gagnvart læknanemum og málefnum sem þá snerta á forsetatíð hans. Einnig eru verðlaunin viðurkenning fyrir frábæra kennslu í gegnum árin.
















Á hvaða ári ert þú?
Ertu læknabarn?
Ritstjórn Læknanemans henti í hina árlegu og hávísindalegu skoðanakönnun í lok skólaársins 2024-2025. Það voru 164 læknanemar sem tóku þátt að þessu sinni.
Hver er besta hreyfngin?
Hvernig lifr þú af daginn?
1.ár 2.ár 3.ár 4.ár 5.ár 6.ár
Hversu oft hefurðu lesið um sjúkdóm og sannfært sjálfan þig um að þú sért með hann?
Já 11%
Nei 81%
Beinan Hippókratesarlegg 4%
3ju kynslóðar 4%
Röltið í Læknagarð frá bílastæðinu 29%
Stiginn í Fossvogi 43%
Röltið upp í matsalinn á Hringbraut 24%
Stofugangur á skurð 4% Átt þú hlustunarpípu?
Orkudrykkir 40%
Kaff 27%
Adrenalín 31%
Koffíntöfur 2%
Hver er hjúskaparstaða þín?
Þegar próf nálgast 37% Ég er hypochondriac af metnaði/ er með krónískt læknanemaitis 20%
Hvað færð þú þér í morgunmat?
Littmann 3 40% Cardiology 4 30% Önnur tegund 10%
Ekki ennþá 19% Stel af deildarlækna-
Hvert ætlar þú í sérnám?
Hvar lærir þú fyrir próf?
Í hvaða framhaldsskóla varst þú?
Hvernig inniskó átt þú?
Birks 50% Crocs 16%
Sænskir klossar 12%
Strigaskór 18% Alltaf á sokkunum 4%
Uppáhalds fskurinn á LSH?
Kentucky 31%
Tempura 23% Teryaki 32%
Telur þú þig vera með Imposter Syndrome?
Já 71%
Nei 29%
Steinbítur 8% Gratíneraður 6%
Hefur þú mætt á viðburð á vegum FÁL eða FÁSBI?
Hvaða persónuleikaröskun á best við þig?
Obsessive compulsive personality disorder
69%
Schizoid 10%
Narcissismi 21%
Hvaða sérgrein myndirðu velja ef engin væri til nema þessar þrjár?
Háls, nef og eyrna 70%
Heimilislæknir á Hornströndum 21%
Réttarlæknisfræði 9%
Blá eða hvít spítalaföt? Tókst þú þátt í Ástráði?
Blá 39%
Hvít 43%
Blandað 18%
Varstu búin að ákveða hvernig læknir þú vildir verða áður en þú fórst í læknisfræðina?
Nei alls ekki 62% Já og er á sama máli 20%
Já, en skipti um skoðun 18%
Já 60%
Nei 11%
Nei, 1.ár 29%
Ertu sýkótískur eða nevrótískur að eðlisfari?
Sýkótískur 15%
Nevrótískur 40%
Hvað er það? 45%
Hversu marga tíma sefur þú að meðaltali?
Myndir þú treysta þér að fara í síðerma slopp á stofugang?
Hefur þú fengið að vera viðstaddur fæðingu?
Hver er hin fullkomna blanda af spítaladjúsnum? (Vatn:Djús)
5-7 klst 57%
8-10 klst 35%
12 klst 1%
Hvað er svefn? 7%
Hvaða hlutverki gegndir þú í fyrsta hópverkefninu?
Nei er í preklíník 46%
Nei er í klíník 31%
Já er í preklíník 14%
Já er í klíník 9%
Hversu mikið vinnuálag upplifr þú í venjulegri viku í náminu?
Já kvk 20% Já kk 13%
Nei ekki kominn svo langt 65%
Já hef fætt barn 2%
Til hvers eru risavasarnir á læknasloppum?
3:1 blanda 42%
4:1 blanda 42%
2:1 blanda 9% 1:1 blanda 7%
Þú færð kulnun, hvað gerir þú?
Sá sem sendi "Getum við hist?" skilaboðin 47%
Sá sem mætti og gerði ekkert 10%
Sá sem gerði allt 25%
Sá sem sendi verkefnið klukkan 02:57 nóttina fyrir skil 18%
Hvert er uppáhalds klósettið þitt á spítalanum?
Hófegt og viðráðanlegt 18%
Talsvert en viðráðanlegt 54%
Mikið og erftt að ná utan um 24%
Yfrþyrmandi 4%
Það sem er næst 35%
Kjallarinn á Kvenna 19%
Einkaklósett í LG 15%
Krakka á BMT barna 14%
13D skurð 12%
MÓSA einangrun á deild 4%
Kringlan 1%
Til að geyma Handbókina™ og siðfræðikverið frá Svani 44% Er með heilt saumasett, refexhamar, stuðtæki og 3L RA á mér öllum stundum 21% Geyma 3 kexpakka fyrir morgunfund 22%
Fór í hérað strax eftir 2. ár, vasarnir eru augljóslega fyrir peninga 13%
Hver er besti tiktok læknirinn?
Svanur Sigurbjörnsson 28%
Dr. Mike 22%
Dr. glaucomfecken 22%
Dr. Pimple popper 12%
Skagabros 7%
Læknarnir á húðlæknastöðinni
(Queens Jenna og Ragna) 6%
Dermdoctor (Dr. Shah) 2%
Dr. Rubin 1%
Bíð eftir að fá lækningaleyf til að skrifa út SSRI og Concerta fyrir sjálfa/n mig 31%
Kulnun er ekki til þarf að lesa alla Grays fyrir IA prófð 13%
Ræð mig bara í vinnu á geðinu í sumar, það lagar þetta 29%
Hætti þessu rugli og verð brimbrettaþjálfari í Thaílandi 27%
Hvaða vefsíðu/forrit notarðu mest í náminu?
Anki 48%
Amboss 17%
Uptodate 12%
Tiktok 10%
Wikipedia 5%
Pubmed 4%
Kenhub 4%





















Ari Jón Arason
Ásgeir Haraldsson
Ásta Dögg Jónasdóttir
Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson
Eiríkur Steingrímsson
Elías Sæbjörn Eyþórsson
Elsa Björk Valsdóttir
Gerður María Gröndal
Hjalti Már Björnsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Margrét Helga Ögmundsdóttir
Marta Guðjónsdóttir
Svanur Sigurbjörnsson
Sveinn Hákon Harðarson
Þórarinn Guðjónsson















Sveinn Hákon Harðarson Þórarinn Guðjónsson
Svanur Sigurbjörnsson
Marta Guðjónsdóttir
Margrét Helga Ögmundsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Hjalti Már Björnsson
Gerður María Gröndal
Elsa Björk Valsdóttir
Elías Sæbjörn Eyþórsson
Eiríkur Steingrímsson
Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson
Ásta Dögg Jónasdóttir
Ásgeir Haraldsson
Ari Jón Arason




















Lóðrétt
Virkt niðurbrotsefni spironolactone.
Hvaða gamalreynda sýklalyf veldur vanmyndunarblóðleysi (aplastic anemia)?
Hvað má kalla hallux valgus?
Hvaða veirusjúkdómur veldur Koplik spots?
Empty can test prófar hvaða vöðvasin?
Latneska heitið á vélindalokakrampa.
Lyf sem litar þvag appelsínugult, er einnig gott berklalyf.
Sjúkdómur sem getur tengst mótefnunum anti-dsDNA, anti-Sm og anti-RNP.
Hvaða sýklalyf verkar á DNAgyrasa bakteríu?
Lyf sem hemur Gammakarboxyleringu á storkuþáttum.
Þrennd sem samanstendur af minnkuðum hjartatónum, hækkun á JVP og lágþrýstingi.
Þrennd sem samanstendur af sepum í nef, ofnæmi fyrir aspirini og astma er nefnd eftir hvaða kalli?
Lárétt
Vancomycin getur valdið heilkenni sem kennt er við þennan lit.
Hjartalyf sem lengir QT bil. Íslensk-sænsk-enska heitið yfr óráð.
Þrennd sem samanstendur af ptosis, ljósopsþrengingu og svitaleysi.
Hvaða próf er gott að gera við grun um rof á akkilesarsin?
Þrennd sem samanstendur af hita, kviðverk í hægri efri fórðungi og gulu.
Hvaða sýklalyf er í sérstöku uppáhaldi háls- nef- og eyrnalækna?
Bátsbeinið Þíamín
Addisons
Apixaban
Risafrumuæðabólga Cíprófoxacín
Augmentin
Charcot
Thompson
Horner
Konfús
Cordarone
Lupus
Rifampicin
Achalasia
Supraspinatus
Mislingar
Bunion
Chloramphenicol
Canrenone
Æðabólga sem fyrirfnnst helst í eldra fólki og veldur verk við að tyggja.
Lyf með aukaverkunina sinarslit.
Vinsæll sértækur factor Xa hemill.
Sjúkdómur sem getur valdið samtímis blóðnatríumlækkun, blóðkalíumhækkun og efnaskiptasýringu.
Hvaða bein er undir tóbaksgróf handar?
Hvaða vítamínskortur veldur Wernickes sjúkdómi?
Blaðamaður læknanemans var staddur í Stokkhólmi á haustdögum. Í fórar vikur kannaði hann aðstæður í fyrirheitna landinu og skrásetti allt sem fyrir augu bar.
Ég kom upp úr neðanjarðarlestinni snemma morguns í byrjun september og hugsaði til kollega minna heima á Íslandi. Sá þá fyrir mér vaða slabbið upp að hnjám og ímyndaði mér táfýluna í búningsklefanum, fan vad trist! Sjálfur var ég ekki einu sinni í jakka. Það var einhver Lindgrenskur blær yfr öllu, fuglarnir sungu og skuggar trjánna dönsuðu í golunni. Svíinn kallar þetta fyrirbæri „höst“, skilst mér. Ég var staddur á spítalakampusnum, mitt í misleitri hrúgu spítalabygginga sem allar tengdust innbyrðis á einhvern óskiljanlegan hátt. Ég ætlaði aldrei að fnna aðalinnganginn. Ég stóð í andyrinu og klóraði mér í hausnum yfr skiltunum. Hvað í helvítinu er „målpunktur“? Eða „Hiss“? Bræðurnir Ljónshjarta höfðu ekki kennt mér nein svona fín orð. Ég svitnaði þegar ég sá hvað tímanum leið. „Information“ gat ég að minnsta kosti skilið svo ég fýtti mér að spyrja til vegar. Í anda nóbelskáldsins hafði ég ætlað mér að mæta hátíðlega mállaus til leiks, með öðrum orðum að komast af alla dvölina án þess að mæla stakt orð á enska tungu. Til undirbúnings hafði ég þrælað mér í gegnum eina og hálfa Astrid Lindgren bók á frummálinu og fannst all vel í lagt. Nú var ég ekki fyrr kominn inn um dyrnar þegar mér hafði tekist að hafa regluna að engu. Var sænska kannski ekki „ómerkileg málýska, sem aungvum er vorkunn að lesa sér til gagns af blaðinu“, eins og Kiljan hafði orðað það? Á leiðinni upp á skrifstofur kardíólógíunnar sótbölvaði ég meðfæddum hroka mínum að halda að ég gæti vaðið inn pratande på svenska eins og ekkert væri náttúrulegra. Ekki var nóg með að ég væri aphasískur, ég var líka orðinn seinn. Líklega væru gestgjafar mínir farnir að velta því fyrir sér hvar jävla islänningen væri eiginlega að fnna, hafði hann kannski villst inn á bar og drukkið sig fullan alveg óvart? Einmitt það já, hugsaði ég á móti og fann hvernig kraumaði í mér. Hverjir þykjast þeir vera?
Ég hrökk upp úr óráðinu. Án þess að taka sérstaklega eftir því var ég kominn alveg upp að dyrum skrifstofunnar og nú opnuðust þær einmitt þegar ég var í þann mund að taka í hurðarhúninn. Konan í dyrunum horfði vingjarnlega á mig. Mér tókst að bera upp erindið á eins vandaðri skóladönsku og mér var unnt: „afsakið, ég er læknanemi frá Íslandi kominn til að hitta…“
Án þess að blikka svaraði viðmælandi minn á sænsku: „Já ert þetta þú! Jú, ég held að hann sé hérna einhvers staðar“. Ég var ekki frá því að við hefðum skilið hvort annað. Hún bað mig að elta sig og ég hlýddi hikandi, meðvitaður um að minnsti misskilningur gæti komið illa í bakið á mér („Já ert þetta þú! Bíddu hérna, ég ætla að skreppa aðeins á klósettið“). Hún vatt upp einhverri hurð og mér létti við að sjá að það var kaffstofa. Inni var heilmargt fólk önnum kafð við að leggja á borð. Ilmurinn af nýlöguðu kaff fyllti vitin. Það rann upp fyrir mér að ef til vill væri fyrsta „fka“ dagsins að hefast, enda klukkan farin að ganga níu. Ég var kynntur fyrir fólkinu. Ég stamaði aftur upp einhverri djöfaþýsku og bjóst allt eins við því að herbergið myndi springa úr hlátri med det samme, ef fyrri viðskipti við frændur vora dani höfðu kennt mér eitthvað. Svíarnir tóku þessari viðleitni hins vegar vel og spurðu jafnvel hvernig stæði á því að ég „talaði sænsku“. Þetta var allt sem þurfti og nú rauk talþrýstingurinn upp úr öllu valdi, sérstaklega þegar ég uppgötvaði að hæglega mátti skipta inn íslensku orði þegar það danska lét á sér standa. Helst kom það mér á óvart hvað margt var „rólegt“ hér í landi Svía.
Eftir þessa fyrstu kynningu var það almenn skoðun málsmetandi manna að ég teldist fullnuma í sænskri tungu og ekki talin ástæða til að tína orðin neitt ofan í Íslendinginn. Helst komst ég í hann krappann þegar Skánar áttu í hlut og voru kannski að útskýra fyrir mér einhverja anatómíska kransæðavarianta, en þá setti ég bara upp strangan og gáfulegan svip og sagði: „Javisst, javisst“.
Vikurnar liðu á spítalanum og alltaf mætti ég jafn vinsamlegu viðmóti hvert sem ég fór. Sænsku sérfræðingarnir þreyttust ekki á að dásama hina duktigu íslensku kollega sína þegar þeir heyrðu hvaðan ég væri. Af spítalanum sjálfum er fátt annað að segja en að þetta var spítali ekki svo ólíkur öðrum spítölum. Helsta kúltúrsjokkið varðaði útskriftarmál. Einhvern tímann snemma morguns sat ég með deildarlækni og ræddi tilfelli aldurhnigins herramanns sem hafði svo gott sem tæmt allar þriggja bókstafa permútasjónir í fyrri heilsufarssögu. „Við þurfum að útskrifa hann“, sagði deildarlæknirinn. Ég setti upp raunasvip honum til samlætis og sagði: „Úff, úff. Nú er illt í efni. Ekki getum við sent þennan lasarus heim til sín og leyft örlögunum að ráða? Á hann góða konu?“. Deildarlæknirinn skrifaði eitthvað á tölvuna. „Hinkraðu aðeins, ég er að sækja um pláss á hjúkrunarheimili…
búinn að senda…heyrðu hann er kominn með pláss. Hann er reyndar bara á leiðinni þangað núna“. Ég ætlaði ekki að trúa eigin eyrum. Ég leit á skjáborðið og viti menn, hann var horfnn. Nú hringdi akút pípið; hjartastopp niðri á bráðamóttöku. Við drifum okkur niður í lyftunni. Ég signdi mig og bjó mig undir harkalega lendingu, en þegar dyrnar opnuðust sá ég að gangurinn var auður. „Er bráðamóttakan hinum megin við ganginn?“, spurði ég. „Þetta er bráðamóttakan“, sagði deildarlæknirinn.



























Che Guevera
Argentínski marxistinn, stjórnmálamaðurinn, rithöfundurinn og byltingarsinninn sem leiddi byltinguna á Kúbu ásamt Fidel Castro og varð síðan ráðherra í ríkisstjórn hans. Che lærði læknisfræði í Argentínu og tók sér pásu með vini sínum á fmmta námsári til að ferðast um Suður-Ameríku á mótorhjóli. Hann sneri aftur til Argentínu eftir ferðina og kláraði læknisfræðina áður en hann sneri sér að pólitíkinni.

Ken Jeong
Bandaríski grínistinn og leikarinn Ken Jeong er efaust hvað þekktastur fyrir Hangover myndirnar og sjónvarpsþættina Community. Jeong lærði almennar lyfækningar og starfaði sem lyfæknir í Kaliforníu áður en hann ákvað að færa sig alfarið yfr í leiklistina.
Læknaneminn tók saman lista af læknum sem eru þekktir fyrir allt annað en afrek á sviði læknisfræðinnar. Vissir þú að þau væru læknar?

Radovan Karadzic Stjórnmálamaðurinn sem stofnaði BosníuSerbneska Demókratafokkinn og var um tíma forseti Bosníu-Serba. Karadzic var síðar sakfelldur fyrir aðkomu sína að hrottalegum þjóðamorðum í Bosníustríðinu og gert að sitja í fangelsi fyrir stríðsglæpi. Karadzic lærði læknisfræði í Sarajevo og geðlækningar í Danmörku.

Gro Harlem Brundtland
Formaður norska verkamannafokksins til margra ára, fyrsta norska konan til að verða forsætisráðherra og fyrrverandi framkvæmdarstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Brundtland útskrifaðist sem læknir frá Oslóarháskóla árið 1963 og lærði síðan lýðheilsufræði við Harvard háskóla.

Anders Danielsen Lie Norski leikarinn Anders Danielsen Lie á að baki glæstan leiklistarferil og hefur komið fyrir í ófáum kvikmyndum eftir leikstjórann Joachim Trier. Danielsen Lie lærði grísku og latínu í háskóla áður en hann lærði læknisfræði. Hann starfar nú sem heimilislæknir í Noregi samhliða leiklistarferlinum.

Bashar al-Assad
Stjórnmálamaðurinn og fyrrverandi forseti Sýrlands sem rekinn var frá völdum í sýrlensku borgarastyrjöldinni árið 2024. Assad lærði augnlækningar í Bretlandi og starfaði sem slíkur en þurfti að taka við stjórnartaumunum í Sýrlandi árið 2000 eftir að bróðir hans lést í bílslysi.

Katrín Jónsdóttir
Fyrrum landsliðskonan, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, fyrirliði Vals og margfaldur Íslands- og bikarmeistari.
Katrín lærði læknisfræði í Noregi samhliða fótboltaferli þar í landi og starfar nú sem heimilislæknir.

Míkhaíl Búlgakov
Rússneski og Sovéski rithöfundurinn sem skrifaði eitt mesta stórverk tuttugustu aldarinnar, Meistarinn og Margaríta. Hann lærði læknisfræði í Kænugarði og vann síðan sem herlæknir á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar.

Freida McFadden
Metsölurithöfundurinn Freida McFadden er ef til vill best þekkt fyrir bókina The Housemaid sem gerð var að samnefndri bíómynd árið 2025. McFadden starfar sem læknir í New York og sérhæfr sig í heilasköðum.

Masoud Pezeshkian
Íranski stjórnmálamaðurinn og núverandi forseti Írans er menntaður hjartaskurðlæknir. Hann lærði læknisfræði í Íran, starfaði sem herlæknir í stríði Íraks og Íran og sérhæfði sig síðan í almennum skurðlækningum og hjartaskurðlækningum áður en hann sneri sér að stjórnmálum.
Myndaskrá
Mynd 1: Alberto Korda, Wikipedia, Che Guevara, 5.mars 1960 [Sótt 18/03/26], https://en.wikipedia.org/wiki/Che_Guevara#/media/File:Che_ Guevara_-_Guerrillero_Heroico_by_Alberto_Korda. jpg
Mynd 2: Mikhail Evstafev, Wikipedia, Radovan Karadžić, 3.mars 1994 [Sótt 18/03/26], https://en.wikipedia.org/wiki/ Radovan_Karad%C5%BEi%C4%87#/media/ File:Evstafev-Radovan_Karadzic_3MAR94.jpg
Mynd 3: Harald Krichel, Wikipedia, Anders Danielsen Lie, 22. maí 2025 [Sótt 18/03/26], https:// en.wikipedia.org/wiki/Anders_Danielsen_Lie#/ media/File:Anders_Danielsen_Lie-0031.jpg
Mynd 4: Gage Skidmore, Wikipedia, Ken Jeong, 21. júlí 2013 [Sótt 18/03/26], https://en.wikipedia. org/wiki/Ken_Jeong#/media/File:Ken_Jeong_by_ Gage_Skidmore_2.jpg
Mynd 5: GAD, Wikimedia commons, Gro Harlem Brundtland, 19. apríl 2009 [Sótt 18/03/26], https:// commons.wikimedia.org/wiki/File:Gro_Harlem_ Brundtland_2009.jpg
Mynd 6: kremlin.ru, Wikimedia commons, Bashar al Assad, 17. maí 2018 [Sótt 18/03/26], https:// commons.wikimedia.org/wiki/File:Bashar_al-Assad_(2018-05-17)_03.jpg
Mynd 7: Pechblaende, Wikimedia commons, Katrín Jónsdóttir, 6. apríl 2013 [Sótt 18/03/26], https:// commons.wikimedia.org/wiki/File:08_Jonsdottir_ Katrin_130406_Sve-Isl_2-0_164548_0147.jpg
Mynd 8: Moisej Nappelbaum, Wikimedia commons, Míkhaíl Búlgakov, 1928 [Sótt 18/03/26], https://commons.wikimedia.org/wiki/File:%D0%9 C%D0%B8%D1%85%D0%B0%D0%B8%D0% BB-%D0%91%D1%83%D0%BB%D0%B3%D0 %B0%D0%BA%D0%BE%D0%B2.jpg
Mynd 9: Mira Whiting Photography, Freida McFadden, About, ED [Sótt 18/03/26], https://www. freidamcfadden.com/about/
Mynd 10: khamenei.ir, Wikimedia commons, Masoud Pezeshkian, 27. desember 2025 [Sótt 18/03/26],https://commons.wikimedia.org/wiki/ File:Masoud_Pezeshkian_2025_(cropped).jpg





































Læknaneminn heimsótti
Einar Stefán Björnsson, sérfræðing í lyfækningum og meltingarlækningum á Landspítala og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Uppvaxtarár
Ég er Austfrðingur í báðar ættir, svo mikill Austfrðingur raunar að ég hef aldrei komið á Vestfrði. Pabbi var kaupfélagsstjóri víðsvegar um landið og þar af leiðandi futtum við oft. Ég hef alltaf verið svolítið rótlaus. Alltaf að fytja og alltaf svolítið eins og aðkomumaður eða... „alien“ eða eitthvað. Við Þórólfur fyrrverandi sóttvarnarlæknir sögðum stundum að við ættum það sameiginlegt að það hefði ræst eitthvað úr okkur þrátt fyrir að vera báðir synir kaupfélagsstjóra. Ég fæddist á Siglufrði og þaðan futtum við til Egilsstaða þegar ég var þriggja ára. Þegar ég var níu ára futtum við í vesturbæinn í Kópavogi, á Kársnesið. Ég fór síðan til Akureyrar í menntaskóla, gat ekki hugsað mér að fara í menntaskóla með sama fólki og ég hafði verið með í barnaskóla. Mig langaði líka að komast að heiman. Ég held að það sé hollt að hafa búið á mörgum stöðum. John Cleese sagði að það væri tvennt sem leiddi til þess að börnin manns yrðu skapandi. Í fyrsta lagi að þau fytji oft – „constant relocation“. Þá er maður alltaf að bera saman; hvað er betra hérna heldur en á hinum staðnum? Í öðru lagi þurfa foreldrarnir að vera ósammála, ekki síst í stjórnmálum. Börnin átta sig smátt og smátt á því að foreldrarnir eru gallagripir eins og annað fólk. Ef mamman er vinstrisinnuð og pabbinn hægrisinnaður getur verið að á einhverjum tímapunkti fnnist barninu eitthvað til í því sem hún segir – og eitthvað til í því sem hann segir. En ef þú ert alinn upp af einhverjum sjálfstæðismönnum úr Garðabæ sem fytja aldrei og deila sömu skoðunum, þá verður aldrei nein umræða. Þá eru minni líkur á að menn verði víðsýnir.
Sálfræði og heimspeki Ég var á Akureyri í fögur ár í menntaskóla eins og lög gera ráð fyrir. Þar var ég í máladeild og las latínu meðal annars, það var erftt. Ég var góður í tungumálum en aðallega var ég góður í að læra hluti utanbókar. Var ekki eins góður í að skilja. Seinna þegar ég fór í læknisfræðina fannst mér til dæmis erftt að skilja ónæmisfræðina, erfðafræði og þannig lagað. En anatómíuna lærði ég alla utanað og gat rausað henni upp sisvona. Enda er læknisfræðin ekkert annað en að sitja á rassgatinu og lesa. Það þarf ekkert svo mikið meira. Er þá eitthvað betra að koma af eðlisfræðibraut?
Eftir stúdentspróf kenndi ég í grunnskóla í eitt ár. Þetta hljómar eins og eitthvað af nítjándu öldinni en svona var gert við stúdenta í gamla daga. Maður hafði enga þjálfun í að kenna fólki. Í dag er þetta margra ára háskólanám. Hins vegar eru allir kennarar í einhverjum skilningi, það er bara hluti af lífnu. Maður kennir börnunum sínum, maður kennir foreldrum sínum á tölvuna. Þið kennið hvert öðru. En ég hef aldrei á ævinni verið jafn feginn að komast í helgarfrí eins og þegar ég kenndi í 12 ára bekk. Það er auðveldara að kenna í læknadeild þar sem nemarnir hafa alveg óstjórnlegan áhuga á náminu. Maður getur varla setið við þetta borð og sagt eitthvað án þess að allir fari að fálma eftir penna eða tölvu til að skrifa hjá sér. Nei, í guðanna bænum hlustiði frekar! Þau eru svo hrædd um að þetta festist ekki í hausnum. Síðan fór ég bara í Háskólann. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera svo ég skráði mig í sálfræði eins og villuráfandi unglingar gera stundum. Var þar bara í eitt ár, fannst það ekki skemmtilegt. Þá svissaði ég yfr og tók tvö ár í heimspeki. Ég fann mig ekki heldur í því. Ég man að eitt sumarið átti ég að skrifa ritgerð. Ég hitti prófessorinn um vorið og hann lét mig hafa stafa af bókum sem ég hafði með mér þegar ég fór út á land að vinna. Ég komst lítið í að sinna ritgerðinni en um haustið kom ég aftur á fund þessa manns. Hann var með skrifstofu í aðalbyggingu Háskólans og þar var hann búinn að hlaða svo upp mörgum bókum og pappírum í kringum sig að maður komst varla inn í herbergið Það rétt sást í hann. Ég hafði verið úti á landi að vinna og var náttúrulega hraustur og útitekinn eftir því, en þarna sat hann náfölur því hann hafði ekkert farið út fyrir heim bókanna allt sumarið. Og ég hugsaði með mér: „andskotinn, ég ætla ekki að verða heimspekingur“.
Læknadeild Ég fann læknisfræðina svolítið seint. Ég vissi ekkert hvað ég ætlaði að verða. Eftir sálfræðina og heimspekina langaði mig að prófa að takast á við erftt nám eins og læknisfræðina til að sjá hvort ég gæti það yfrleitt. Á þeim tíma gátu allir byrjað í numerus clausus og ég get alveg sagt ykkur það, því það er ekkert leyndarmál, að ég féll í efnafræði. Ég fékk fóra og þurfti að endurtaka árið. Það var erftt, verandi eldri og kominn með barn og svona. Mér gekk betur í seinna skiptið og eftir það var ég alltaf meðal þeirra efstu í bekknum.
Ætli ég haf ekki verið eitthvað um 25 ára þegar ég byrjaði. Ég var bara eins og af þeirra. Það sem mér fannst ég hafa fram yfr hina nemendurna var náttúrulega ekki stærðfræði eða eðlisfræði heldur frekar lífsreynsla. Ég átti barn og hafði futt að heiman 16 ára gamall, maður þurfti ekkert að hafa áhyggjur af því að koma of seint heim úr bíó eða af
einhverju balli. Reyndar átti móðir mín við svefnvandamál að stríða, ef hún vaknaði um nóttina sofnaði hún ekki aftur, svo ég létti af henni með að fara. Nú búa margir alveg lon og don hjá foreldrunum alveg þangað til þau verða gráskeggjuð…nei ég segi nú svona. Mér fannst ekkert gaman að læra bíókemíu og margt þarna á fyrstu árunum fannst mér ekki skemmtilegt. En um leið og ég fór að hitta sjúklinga sá ég að þetta var bara mitt líf. Ég hef svo mikinn áhuga á fólki, eins og þetta „hvaðan ertu“.
Sérnám Ég tók kandídatsárið í Svíþjóð, ég fór strax og ég var ekkert að vinna á spítala á Íslandi. Ég var búinn að tefast, ég var með tvo krakka og þurfti að drífa mig svolítið. Ég var á spítala úti á landi, sem ég held að sé mjög gott. Þetta var svona spítali ekki ósvipaður Akureyrarspítala. Maður var einn á nóttunni, svæfngalæknir var ekki í húsinu. Á kvöld- og helgarvöktum þurftirðu að fara sjálfur að dæma röntgenmyndir sem röntgenlæknar fóru yfr daginn eftir. Maður þurfti að læra að vera svolítið sjálfstæður. Ég tók sex mánuði á kírúrgíu og sex mánuði á medisín. Þá var ég búinn með kandídatsárið og fór beint í sérnám og doktorsnám samhliða. Ég byrjaði þarna 1990, varði doktorsritgerð 1994 og árið eftir var ég orðinn sérfræðingur í meltingarlækningum. Ég held að það sé mjög gott að fara utan ef maður hefur tök á því og fölskylduaðstæður leyfa. Ég fór til Svíþjóðar af því að mér leist vel á það. Ég hafði heyrt að það væri fölskylduvænt og mikill áhugi á íþróttum og ég hafði áhuga á íþróttum. Ég hafði unnið þar eitt sumar eftir fmmta árið og líkaði mjög vel. Það var líka auðvelt að komast inn. Mig langaði ekki að fara til Ameríku, ekki í sérnám allavega. Ég fór seinna til Ameríku í post-doc eftir að ég varði doktorsritgerð og hef verið í nokkur ár í Bandaríkjunum en alltaf bara í rannsóknum.
Rannsóknir Ég hef aldrei haft áhuga á stofulækningum. Minn aukatími fer allur í rannsóknir. Svo fnnst mér þægilegt að þurfa aldrei að hugsa um peninga. Ég panta bara þær rannsóknir sem ábending er fyrir og geri ekkert meira en þarf að gera. Ég man að þegar ég var í sérnámi í Gautaborg fékk ég alltaf svimandi reikning frá lánasjóðnum á haustin af því að ég var farinn að hafa sæmilegar tekjur. Þá þurfti ég að fara til Noregs í nokkrar vikur á ári að vinna fyrir skuldunum, á vertíð. Eins og af minn þegar hann fór til Vestmannaeyja á vertíð, nema þarna var ég að veiða sjúklinga, ekki þorska. Þegar maður sá sjúkling fékk maður bara dollaramerki í augun, þarna er cash! Það er gott að þurfa ekki að hugsa svona lengur. Ég bjóst aldrei við að rannsóknir yrðu mitt hlutskipti en ég datt inn í þetta. Ekki

síst af því að í Svíþjóð er ætlast til þess á háskólasjúkrahúsi að þú sért með í þessu, að skapa þekkingu. Prófessorarnir ætlast til að þú leggir eitthvað til, hjálpir til og fórnir þér aðeins. Ef menn nenna ekki að taka þátt í neinu þá er ekkert víst að þeim verði sinnt þannig að þeir geti orðið dugmiklir sérfræðingar. En mér fannst þetta bara svo ofoðslega skemmtilegt. Fyrst þegar maður byrjar að rannsaka þá er maður eiginlega verkfæri í höndum annarra - það er einhver annar sem fær hugmyndina. En svo þegar þú klárar doktorspróf þá ertu búinn að vinna í nokkur ár og lærir aðferðarfræðina, statístík og að skrifa greinar – sem maður þarf að gera undir handleiðslu, maður getur ekki byrjað sjálfur á því heldur þarf maður að læra það En svo er þetta bara svo mikið frelsi. Það er enginn sem segir mér hvað ég á að rannsaka heldur dettur mér bara eitthvað í hug. Ég hitti einhvern sjúkling sem er með einhvern sjúkdóm og það eru einhver tengsl þarna sem eru ekki þekkt og maður hefur áhuga á að skoða nánar. Maður eltir einhverja hugmynd, fnnur eitthvað og svo skapar maður þekkingu. Maður þarf þá að vera óhræddur að presentera sína niðurstöðu.
Svo með þetta DILI (drug induced liver injury) kjaftæði, ég smitaðist af því af prófessornum mínum úti í Gautaborg. Hann var að fá mig til að skrifa case report um eitthvað lyf sem einhver hafði fengið og orðið gulur. Svo fór ég sjálfur að vinna með þetta. Við tókum material frá Svíþjóð þar sem sjúklingar höfðu fengið gulu á lyfum og fórum að athuga með horfur þeirra. Það kom í ljós að 10% af þeim sem fengu gulu vegna lyfa dóu eða þurftu lifrarígræðslu. Við sýndum fram á að þetta gæti verið hættulegt. Þegar ég kom til Íslands gerðum við stúdíu þar sem við söfnuðum öllum DILI tilfellum yfr tveggja ára tímabil og vorum þeir fyrstu sem gátu sýnt fram á hversu margir af þeim sem taka lyfð fá þetta, við höfðum svo góðan gagnagrunn. Þessi grein er með meira en 1070 tilvitnunum eins og er, það er rosalega mikið Það sem er gaman í þessu er að skapa einhverja þekkingu og svo er líka rosalega gaman þegar þú ert kominn inn í þetta hvað þetta er alþjóðlegt. Ég
þekki alla sem eru að stúdera þetta DILI úti í heimi persónulega, þetta eru bara vinir mínir. Það er einn í Argentínu, einn í Bangalor í Indlandi, einn á Malaga á Spáni og náttúrulega á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum. Ég er búinn að heimsækja allt þetta fólk og þeir hafa komið hingað festir og verið andmælendur við doktorsvarnir til dæmis. Þetta er bara lífstíll. Ókosturinn er að maður er aldrei búinn. Konan mín heldur enn þá að ég geti bara farið í frí og gert ekki neitt. Maður vakir stöðugt yfr emailum því það er náttúrulega skelflegt þegar þetta fer að hrannast upp. Ég svara nánast allan sólarhringinn. Konan mín segir: “í guðanna bænum Einar, ætlarðu að svara þessu á laugardagskvöldi? Það halda allir að þú eigir þér ekkert líf!” Ég vil meina að maður geti alveg átt sér líf þó að maður sé í þessum rannsóknum. Ég er búinn að skrifa meira en 430 vísindagreinar og samt hef ég aldrei misst af partýi. Maður vinnur sér inn með því að vinna vel.
Spítalar
Er rétt að þú hafr byrjað spítalaferilinn sem aðstoðarmaður sjúkraliða á Landakoti? Já, ég byrjaði þannig. Ég held að það sé hollt að hafa kynnst feiri stéttum innan spítalans. Nú vinnur maður ekki lengur svo mikið með sjúkraliðum. Ég held að þetta sé erfðasta starfð innan heilbrigðiskerfsins. Maður þurfti að standa yfr sjúklingum sem voru að kasta upp, hreinsa upp allt þetta sem kemur frá þeim, styðja þá úr rúminu og lyfta þeim. Nú eru að vísu komin betri hjálpartæki, en þetta var rosalega erfð vinna.
Þetta var eftir þriðja árið. Landakotsspítali var í þá daga akútspítali, einn af þremur í Reykjavík ásamt Borgarspítala og Landspítala. Það er eins gott að þið fáið að heyra af þessu. Kosturinn við þetta fyrirkomulag var að það var svolítil samkeppni á milli spítalanna. Og ókosturinn… Sko mér fnnst auðvitað alveg ágætt að það sé bara einn spítali í dag og allt það. Ég er svosem ekki í neinum áhættuhópi. Ég hef ekki enn gert mig svo ómögulegan að ég þurf að hætta í fússi. Ef það gerist geturðu ekki leitað á náðir annarra spítala, þú þarft bara að fýja úr landi ef þú ert sjúkrahúslæknir.
Menningin var ólík milli spítalanna. Á Landakoti voru til dæmis alltaf haldnir fræðslufundir á laugardögum og þótti sjálfsagt að allir læknarnir kæmu að heiman frá sér til að sækja þessa fundi. Konurnar höfðu ekki eins mikið að segja í þá daga eins og núna. Ég er viss um að margar konur myndu ekkert acceptera það að eiginmaðurinn væri að fara upp á spítala á margra klukkutíma langan fund þegar hann á að vera í fríi, en það var bara hluti af starfnu.
Spítalarnir voru sameinaðir árið 2000. Þegar ég kom til baka árið 2009 eftir 20 ár í útlöndum var ennþá einhver rígur milli þessara fylkinga, svonefnd “húsasótt”. Menn voru ennþá að segja “já þarna á Landspítalanum rarara”, þó að það væru mörg ár liðin frá sameiningunni. En þið þurfð nú ekki að hafa áhyggjur af því. Þið sættið ykkur bara við hvernig þetta er á Landspítalanum, annars getiði bara farið. En ég er rosalega ánægður með Landspítalann og brenn fyrir honum. Ég er heldur ekki í neinu öðru, ekki með hugann einhvers staðar í prívat klíník. Þó að Landspítalinn sé ekki fullkominn þá er samt mikill mannauður innan hans. Því miður búum við ekki yfr skipulagshæfleikum í sama mæli, enn að byggja þennan spítala 25 árum seinna. Í besta falli fæ ég að vera sjúklingur á nýja spítalanum.
Val á sérgrein Hvers vegna valdirðu meltingarlækningar? Það var tilviljun að sumu leyti. Ég fór að vinna á lyfæknisdeild sem var sérhæfð meltingardeild. Mér líkaði rosa vel við þá sem voru á þeirri deild. Mér fannst ég passa þar inn í, góð stemning, mikill húmor og svona. Mér fnnst erftt að umgangast fólk sem tekur sjálft sig allt of alvarlega. Ég fékk líka áhuga á þessum lifrarsjúkdómum. Mér fannst það heillandi að fnna út hvað væri að sjúklingum með hækkuð lifrarpróf - alls konar hlutir. Mér fannst það svolítið svona „professionalt interessant“. Það er líka ágætt að geta speglað en ég myndi ekki vilja vinna bara við speglanir. Sumir heillast svo mikið af því að þeir fara í þetta sem sérhæfngu, í terapevtíska endóskópíu til dæmis. Í mínum huga er speglun tæki til þess að hjálpa til við greiningu sjúkdóma en ekki einhver list í sjálfu sér, ég hefði bara ekki þolinmæði í það. Ég ber hins vegar mikla virðingu fyrir þeim sem fást við þessa terapevtísku endóskópíu, því að eins og í skurðlækningum þá færðu óhjákvæmilega fylgikvilla sem þú þarft að díla við Þeir sem helga sig slíku, sem þykir nú kannski svolítið merkilegra heldur en að vera bara venjulegur speglari sem er bara að skoða, þeir eru að taka stóra sepa og gera inngrip í brisið og allt saman og þurfa að díla við fylgikvilla sem koma. Var engin önnur sérgrein sem kom til greina?
Í rauninni ekki. Ég hafði mjög mikinn áhuga á lyfækningum og vissi það fjótlega að ég hefði aldrei verið sérstaklega handlaginn eða svona, ekki verið að smíða eða neitt svoleiðis. Ég sagði seinni konunni minni að það væri tvennt sem hún þyrfti að vita þegar við vorum að draga okkur saman: Í fyrsta lagi er ég bölvaður djöfulsins þrasari, ég þrasa og þrasa endalaust og gefst aldrei upp
[síminn hringir]. Þetta er hún. Í öðru lagi að ég get ekki smíðað [í símann:], er það ekki rétt Helena, að ég geti ekki smíðað? Giftur smiðsdóttur… [klárar símtal]. Þannig það lá aldrei fyrir mér, þeir sem fara í skurðlækningar þurfa að vera virkilega góðir handymen held ég. Enginn hafði trú á mér í sambandi við að gera eitthvað verklegt heima þegar maður var yngri, maður var bara dæmdur úr leik. Þess vegna gleymi ég aldrei þegar ég var að læra að spegla úti í Gautaborg og það var einhver sjúklingur rosalega stressaður og kveið þessu ofoðslega mikið eins og stundum er með þessar speglanir. Og þá er það þannig að hjúkrunarfræðingarnir á speglun hjálpa sjúklingunum í gegnum speglunina, það er rosalega stór hluti af þeirra starf. Sjúklingarnir vilja í raun og veru gera þetta en það þarf að hjálpa þeim í gegnum erfðustu hlutana. Og ég var að spegla og það var einhver rosalega stressaður sjúklingur og þá segir einhver hjúkrunarfræðingurinn allt í einu „heyrðu þú þarft engar áhyggjur að hafa af þessu því að hann Einar er svo rosalega handlaginn“. Ég bara trúði þessu ekki! Það hafði aldrei nokkur maður sagt þetta um mig fyrr eða síðar, ég bara gleymi þessu ekki. En maður getur lært allt.
Heilræði
Hvað einkennir hinn fullkomna unglækni? Í fyrsta lagi á hann að viðhalda þessari empatíu sem læknanemar hafa. Sem læknanemi vorkennir maður öllum voðalega mikið, það má ekki tala illa um sjúklingana og allt þetta. Menn tapa þessu oft þegar þeir eru orðnir sjóaðri og farnir að vinna með mikið af sjúklingum sem eru vælandi og trufandi læknana að óþörfu þótt það sé ekkert að þeim! Empatían kemur aftur til baka þegar maður er orðinn sérfræðingur. Við þurfum að muna að við erum að díla við sjúklinga sem eru að upplifa erfðustu stundir lífsins. Í öðru lagi þurfa unglæknar að kunna sinn sjúkling. Hvað kom út úr TS síðast, hvað var CRP í gær? Þá er ég ekki að meina að þú þurfr að kunna hvert einasta blóðpróf hjá öllum heldur að menn haf hinar klínískt mikilvægu breytur á hreinu. Ef einhver liggur inni vegna blæðingar þá þarf maður að vita hemóglóbínið, skiljiði?
Ekki natríum gildið Það tekur tíma að fá tilfnninguna fyrir því hvað er mikilvægt. En það er traustvekjandi ef þú kannt það, líka af því að sjúklingurinn er að fylgjast með Og ég tala nú ekki um ef þú hringir konsúlt. Þú getur ekki verið alveg blankur yfr öllum spurningum sem þú átt von á að fá. Ég man eftir því þegar ég var sjálfur unglæknir. Áður en ég hringdi í sérfræðing fór ég og talaði við sjúklinginn, lagði öll púslin á borðið og oftar en ekki var maður þá einhvern veginn búinn að leysa dæmið, bara með því að setja þetta allt í orð. Svo hringdi maður. Ég var með ráðgjöfna í þessari viku svo ég get líka gefð ykkur andhverfuna og sagt ykkur hvað er verst, viljiði það? Það er að hringja í sérfræðing án þess að hafa kynnt sér tilfellið vel, og án þess að hafa hitt sjúklinginn. Eins og gerðist í gær. Það er hætt við vissri afneitun hjá okkur öllum þegar það koma upp vandamál sem maður á erftt með að feisa. Hjúkrunarfræðingurinn hringir; kannski útaf einhverjum paranojuðum gamlingja sem heldur heilli deild í gíslingu og er að gera alla vitlausa. Þá er freistandi að hringja beint í sérfræðinginn, sem spyr á móti: hvernig er hann þá núna? Þá er betra að hafa farið og skoðað sjúklinginn, það er þeirra djobb.
Hraðaspurningar
Með hvaða liði heldurðu á Íslandi?
Þór á Akureyri
En í ensku?
Westham United
Uppáhalds land?
Ástralía
Uppáhalds matur?
Lasagna
Nammi?
Súkkulaðirúsínur, ljósar.
Stjörnumerki?
Naut, sama dag og
Halldór Laxness. Það er mikilvægt
Karamazov bróðir?
Ætli ég sé ekki nautnaseggurinn, Dimitri.
Besti hlaupatími?
Hálfmaraþon 1:38. Ég hef einu sinni hlaupið maraþon. Ég hljóp á 4:01. Ég hefði náð undir fórum ef ég hefði ekki þurft að skíta. Þetta var var í Rochester í Minnesota. Það er svo heitt á þessum árstíma að maður þurfti að fara af stað um morguninn mjög snemma. Ég var alltaf vanur að borða mikið pasta, ég var svo seinn fyrir að ég borðaði ekki fyrr en klukkan 9 kvöldið fyrir (keppnina). Þegar hlaupið er svo að fara í gang þá kemur bara gastrocolic refex… það voru kamrar, það var mjög gott að létta á sér. En þetta var afsökunin mín.
Eru sumir sjúklingar gulari en aðrir?
Já það er mikill munur á því. Voruði ekki búin að sjá myndina af sjúklingnum sem ég var með? Sjáið hérna. Athugið samt að gula er ekki það sem þú sérð. Gula er rúmlega tvöföld hækkun á bilirúbíni. Ég bað sjúklinginn bara um að fá að taka mynd.
Vitiði hver greiningin er?
DILI?
Nei, ég er ekki alltaf með það! DILI er sjaldgæfur sjúkdómur. Þetta er alkóhólhepatít. Þessi sjúklingur var í bata frá sinni fíkn. Það þýðir að hann var tilbúinn að játa syndir sínar. Batinn byrjar þegar þú ert farinn að geta viðurkennt þínar syndir. Hann sagðist drekka eina hvítvínsbelju á dag síðustu sex mánuði. Það eru þrír lítrar. Hann leitaði vegna gulu.

Á myndina vantar Ástu Margréti Helgadóttur, Brján Hróbjartsson, Börk Dúa Jónsson, Elvar Elí Hallgrímsson, Fríðu Kristínu Jónsdóttur, Gísla Ófeigsson, Gu ð rúnu Ernu Einarsdóttur, Hildi Reykdal Snorradóttur, Hrafndísi Kötlu Elíasdóttur, Högna Sigurðsson, Kristínu Rán Guðjónsdóttur, Oskar Einar Bukowski, Óskar Pál Róbertsson, Pétur Erni Svavarsson, Sindra Snæ Jónsson, Símon Orra Sindrason, Sólveigu Óskarsdóttur, Tómas Böðvarsson, Valgeir Eini Borgarsson og Þorgeir Sölva Kjartansson.
Ne ð sta rö ð frá vinstri Aldís Elva Róbertsdóttir, Arna Gu ð laug Axelsdóttir, Helga Vi ð arsdóttir, Anna Rakel Tómasdóttir Briem, Ida Karólína Harris, Valger ð ur Rún Samúelsdóttir, Fanney Lilja Össurardóttir, Anais Lilja Bergsdóttir, Mira Esther Kamallakharan, Elín Katla Henrysdóttir, Arna Rún Ingvarsdóttir, Hekla Xi Káradóttir, Katrín Vala Zinovieva, Guðrún Edda Min Harðardóttir, Maríanna Ólafsdóttir, Kolbrún Elma Ágústsdóttir, Karen Þrastardóttir, Birta Rut Birgisdóttir.
Mi ð ju rö ð frá vinstri Auður Ágústsdóttir, Una Sigrún Zoëga, Ilmur Kristjánsdóttir Hinz, Klara Rán Þórðardóttir, Katrín Embla Friðriksdóttir, Sara Ragnheiður Kristjánsdóttir, Fríða Sif Atladóttir, Alma Rut Einarsdóttir, Hildur Tanja Karlsdóttir, Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Álfrún Lind Helgadóttir, Jana Gajic, Jóanna Marianova Siarova, Sigrún Edda Arnarsdóttir, Stella Hlynsdóttir, Ásta Júlía Grímsdóttir, Vigdís Alda Gísladóttir, Þ órhildur Anna Traustadóttir.
Efsta rö ð frá vinstri Magnús Geir Kjartansson, Kristófer Dagsson, Maron Snær Harðarson, Orri Víkingur Einarsson, Leon Andri Hauksson, Ólafur Pétur Ey þ órsson, Ísak Wenger Eiríksson, Arnór Logi Pétursson, Atli Páll Valdimarsson, Hector Snær Hernandez Aronsson, Kristófer Óli Sigurðsson, Páll Sólmundur H. Eydal, Sigtryggur Þ eyr Þráinsson, Bergur Máni Skúlason, Jón Halldór Gunnarsson, Baldur Breki Hávarðarson, Örvar Logi Örvarsson, Aron Máni Snorrason, Indriði Kárason, Sigurður Arnar Davíðsson, Viktor Vi ð ar Valdemarsson.

Ne ð sta rö ð frá vinstri Árni Tuan Luong Ly, Sólveig Rósa Hugadóttir, Elín Ragnhildur Ragnarsdóttir, Hekla Hákonardóttir, Anína Marín Thorstensen, Þórunn Anna Guðbjartsdóttir, Ingibjörg Ragna Pálmadóttir, Elín Halldóra Erlendsdóttir, Hrafnkatla Dahlmann Ívarsdóttir, Bjartur Thorlacius, Sara Antonía Magneudóttir Wittebrood, Páll Jens Reynisson, Páll Sólmundur Eydal, Ína Gu ð rún Gísladóttir, Karólína Mist Stefánsdóttir, Harpa Dís Hákonardóttir. Á myndina vantar Elínu Lóu Baldursdóttur, Guðbjart Árna Björnsson, Inga Hrafn Guðbrandsson, Ísabellu Arnarsdóttur, Jason Jens Illugason, Katrínu Birnu Jónsdóttur, Kára Christian Bjarkarson, Kristján Daða Róbertsson, Laufeyju Kristínu Lárusdóttur, Margréti Ástu Kristjánsdóttur, Sigrúnu Meng Ólafardóttur, Steinþór Snæ Hálfdánarson, Tómas Helga Snorrason, Tryggva Ásmund Briem og Urði Matthíasdóttur.
Mi ð ju rö ð frá vinstri Kristín Diljá Karlsdóttir, Unnur Guðmundsdóttir, Kristín Jóna Kristjónsdóttir, Auðbjörg Erla Karlsdóttir, Helga Sólveig Ómarsdóttir, Embla Sif Pálmadóttir, Anna Sigríður Arnarsdóttir, Birta Hlín Birgisdóttir, Elín Lilja Sindradóttir, Íris Margrét Sturludóttir, Móri Flosadóttir, Elísabet Sara Gísladóttir, Klara Margrét Ívarsdóttir, Freyja Stefánsdóttir, Unnur María Ingvarsdóttir.
Efsta rö ð frá vinstri Sóley Brattberg Gunnarsdóttir, Hekla Dís Kristinsdóttir, Perla Karen Gunnarsdóttir, Margrét Íris Sigurjónsdóttir, Agnes Sigurðardóttir, Birna Hrólfsdóttir, Ísabella Sól Gunnarsdóttir, Au ð ur Valdimarsdóttir, Ásta Rakel Birgisdóttir, Einar Ernir Magnússon, Tómas Andri Ólafsson, Andri Már Valdimarsson, Atli Þór Jónsson, Karl Oddur Andrason, Andri Þór Sigþórsson, Björn Dúi Ómarsson.

Á myndina vantar Agnesi Björk Brynjarsdóttur, Alrúnu Maríu Skarphéðinsdóttur, Ásdísi Karen Árnadóttur, Böðvar Pál Ásgeirsson, Heklu Maríu Arnardóttur, Jóhann Hrafn Ragnarsson, Jóhönnu Vigdísi Gu ð jónsdóttur, Sigur ð Arnar Hannesson, Trausta Felix Valdimarsson, Úlf Benedikt Fjölnisson, Ýr Ý Nhu Tran og Þuríði Ernu Hv. Halldórsdóttur
Ne ð sta rö ð frá vinstri Sara Dögg Th. Lárudóttir, Kolka Magnúsdóttir, Kristín Ylfa Guðmundsdóttir, Anna Sif Mainka Sveinsdóttir, Magna Þórey Guðbrandsdóttir, Katla Sigríður Gísladóttir, Isabella María Eriksdóttir, Katrín María Ólafsdóttir, Anna Valgerður Oddsdóttir, Sigurbjörg Ýr Sigtryggsdóttir, Jóna Björk Einarsdóttir, Karen Hilma Jónsdóttir, Eva Sól Einarsdóttir, Kristín Brynja Þorvaldsdóttir.
Efsta rö ð frá vinstri Ingvar Gíslason, Jón Bjartur Þorsteinsson, Katrín Ósk Arnarsdóttir, Maríanna Björg Ingvaldsdóttir, Kristín Helga Þrastardóttir, Kristjana Lind Ólafsdóttir, Brynja Sævarsdóttir, Eiríkur Kúld Viktorsson, Vigfús Höskuldur Orri Árnason, Hjörtur Viðar Sigurðarson, Jóhannes Helgason Thoroddsen, Jóhann Styrmir Jónsson, Dagur Björn Benediktsson, Haraldur Orri Arnarsson, Hlynur Breki Harðarson, Guðmundur Kristinn Þorsteinsson, Leifur Skarph. Snorri Árnason, Carlos Magnús Rabelo, Hrannar Ása Magnúsar, Mi ð ju rö ð frá vinstri Sandra Mist Úlfarsdóttir, Þórunn Perla Jóhannsdóttir, Snædís Óskarsdóttir, Melkorka Ingibjörg Pálsdóttir, Daníela Björg Stefánsdóttir, Anna Þ óra Jóhannsdóttir, Áslaug Ingileif Halldórsdóttir, Aníta Sól Valdimarsdóttir ,Erla Figueras Eriksdóttir, Helena Björk Arnarsdóttir, Kolbrún Sara Haraldsdóttir, Unnur María Agnarsdóttir, Embla Þöll Einarsdóttir, Edda Sólveig Sigtryggsdóttir

Á myndina vantar Aldísi Eyju Axelsdóttur, Andreu Rún Einarsdóttur, Ásdísi Hermanowicz, Braga A ð alsteinsson, Eygló Fanndal Sturludóttur, Guðrúnu Guðmundsdóttur, Helgu Kristínu Sigurðardóttur, Hönnu Maríu Geirdal, Karen Arnarsdóttur, Maríu Ósk Sverrisdóttur, Smára Frey Kristjánsson, Stefaníu Ástu Tryggvadóttur, Sylvíu Söru Ólafsdóttur, Sögu Ingadóttur, Tómas Helga Har ð arson og Viktoríu Ý r Sveinsdóttur
Ne ð sta rö ð frá vinstri Eydís Lilja Haraldsdóttir, Agnes Stefánsdóttir, Silja Dögg Helgadóttir, Matthildur María Magnúsdóttir, Hjalti Dagur Hjaltason, Matthías Löve, Máni Hafsteinsson, Egill Logason, Benedikt Burkni Þorvaldsson Hjarðar, Guðmundur Ingvi Skúlason, Eygló Sóley Hró ð marsdóttir Löve, Lena Lísbet Kristjánsdóttir, Telma Rós Jónsdóttir, Þorgerður Þ órólfsdóttir, Dagbjört Lilja Svavarsdóttir
Mi ð ju rö ð frá vinstri Ger ð ur Eva Halldórsdóttir, Jenn ý Jónsdóttir, Lára Björk Birgisdóttir, Lilja Ósk Atladóttir, Sara Sól Guðfnnsdóttir, Silvía Stella Hilmarsdóttir, Daníel Thor Myer, Melkorka Sverrisdóttir, Rakel Ósk Sigurðardóttir, Karitas Björg Ívarsdóttir, Bryndís Róbertsdóttir, Kolbrá Ethel Dagn ý jardóttir, Vigdís Selma Sverrisdóttir, Iðunn Andradóttir, Kristín Dóra Sigurðardóttir
Efsta rö ð frá vinstri Helga Sif Pálsdóttir, Hekla María Bergmann, Silja Arnbjörnsdóttir Ólafsson, Hrund Gu ð mundsdóttir, Andri Elvar Sturluson, Kolbeinn Theodórsson, Róbert Alexander Björnsson, Baldvin Fannar Guðjónsson, Valdimar Sveinsson, Tryggvi Leó Gu ð mundsson, Halldór Alexander Haraldsson

Á myndina vantar Arnar Þ ór Sigtryggsson, Áslaugu Haraldsdóttur, Bjarka Leó Snorrason, Elínu Maríu Árnadóttur, Elínu Perlu Stefánsdóttur, Fehimu Líf Purisevic, Hildi Gy ð u Grétarsdóttur, Hólmfríði I Steinþórsdóttur, Ingibjörgu Sóley Einarsdóttur, Johan Sindra Hansen, Jökul S. Gunnarsson Breiðförð, Katrínu Þóru Hermannsdóttur, Kára Ingason, Kristján Berg Guðmundsson, Margréti Olsen, Nönnu Óttarsdóttur, Oddnýju Rósu Ásgeirsdóttur, Sigríði Kristjánsdóttur, Sonju Rún Kiernan og Ur ð i Andradóttur.
Ne ð sta rö ð frá vinstri Urður Helga Gísladóttir, Sigríður Björg Helgadóttir, Svava H. Johannessen, Sigrún Ágústsdóttir, Arnhei ð ur Erla Gu ð brandsdóttir, Inga Sóley Einarsdóttir, Katla Björg Jónsdóttir, Anna Sigrí ð ur Jóhannsdóttir, Íris Arna Tómasdóttir, Katrín Wang, Anna Margrét Stefánsdóttir, Hilma Jakobsdóttir, Þ óra Lucrezia Bettaglio, Kristín Fjóla Jónsdóttir
Efsta rö ð frá vinstri Egill Ívarsson, Birta Rakel Óskarsdóttir, Auður Indriðadóttir, Þorri Geir Rúnarsson, Kjartan Þorri Kristjánsson, Viktor Ásbjörnsson, Ólafur Sánchez, Andri Már Tómasson, Trausti Jónsson, Kristján Harðarson, Arnar Sigtryggsson, Dagur Tjörvi Arnarsson, Sigur ð ur Sölvi Sigurðarson, Saga Briem, Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, Mi ð ju rö ð frá vinstri Hafdís Erla Gunnarsdóttir, Gu ð björg Eva Pálsdóttir, Eygló Helga Haraldsdóttir, Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir, Hákon Elliði Arnarson, Jakob Þ órir Hansen, Þ urí ð ur Rut Þ urí ð ardóttir, Ágústa Eyjólfsdóttir, Íris Brynja Helgadóttir, Ásthildur Rafnsdóttir, Katrín Hermannsdóttir, Katrín Hólmgrímsdóttir, Sunneva Roinesdóttir, Helga Sif Gu ð mundsdóttir,

Ne ð sta rö ð frá vinstri Þorgerður Einarsdóttir, Helga Brá Brimar, Helga Húnförð Jósepsdóttir, Elísabet Tara Guðmundsdóttir, Ásdís Brynja Ólafsdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir, Hólmfrí ð ur Steinþórsdóttir, Auður Gauksdóttir, Margrét Olsen, Hjördís Tinna Pálmadóttir, Anna Karen Richardson, Telma Jóhannesdóttir, Ástrún Helga Jónsdóttir, Herdís Eva Hermannsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Kári Brynjarsson Á myndina vantar Árna Daníel Árnason, Bergþóru Hrönn Hallgrímsdóttur, Bryndísi Högnu Ingunnard. Oddsd., Daníel Óla Ólafsson, Diljá Hilmarsdóttur, Elínu Dröfn Einarsdóttur, Elínu Mettu Jensen, Emblu Rún Björnsdóttur, Eygló Káradóttur, Hilmar Frey Friðgeirsson, Hörð Inga Gunnarsson, Iðunni Valgerði Pétursdóttur, Líney Rögnu Ólafsdóttur, Magnús Þ ór Sigur ð arson, Ylfu Dögg Ást þ órsdóttur og Þorvald Inga Elvarsson.
Mi ð ju rö ð frá vinstri Kara Hlynsdóttir, Sædís Karolina Þ óroddsdóttir, Sigrún Júlía Finnsdóttir, Alma Glóð Kristbergsdóttir, Telma Sig þ rú ð ur Gu ð bjarnadóttir, Sóley Sif Helgadóttir, Kristbjörg María Gunnarsdóttir, Kristrún Ingunn S. Sveinsdóttir, Una Jade Gunnarsdóttir, Heiðrún Birta Sveinsdóttir, Laufey Halla Atladóttir, Sigrún Erla Svansdóttir, Kristján Bjarki Halldórsson, Sigurður Bjarni Benediktsson
Efsta rö ð frá vinstri Viktor Ingi Ágústsson, Hjalti Reykdal Snorrason, Birkir Freyr Andrason, Vífll Ari Hróðmarsson, Björn Vilhelm Ólafsson, Guðlaugur Vignir Stefánsson, Björn Hjörvar Harðarson, Bjarni Dagur Þórðarson, Þórður Björgvin Þórðarson, Þorsteinn Ívar Albertsson, Gunnar Jökull Ágústsson, Haf þ ór Sigur ð arson, Ingi Pétursson, Ívan Árni Róbertsson, Egill Gauti Þorsteinsson, Bergmundur Bolli H Thoroddsen, Edward Rumba, Hrafn Sævarsson
Samanburður á langtímaáhrifum meðferðar með kaloríuskerðingu og efnaskiptaaðgerða hjá einstaklingum með offitu og sykursýki 2
Agnes Björk Brynjarsdóttir1
Einar Stefán Björnsson1,2 Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Reykjalundur, Mosfellsbær, Ísland
Inngangur
Tíðni offtu hefur aukist hratt og sjúkdómurinn er eitt helsta lýðheilsuvandamál samtímans. Sykursýki 2 hefur sterk tengsl við offtu. Þyngdartap getur haft jákvæð áhrif á blóðsykurstjórnun og valdið sjúkdómshléi á sykursýki. Efnaskiptaaðgerðir eru áhrifamikil meðferð við sykursýki og offtu. Skortur er á þekkingu á langtímaáhrifum meðferðar með mikilli kaloríuskerðingu (very low energy diet, VLED).
Markmið
Að bera saman langtíma áhrif VLED og efnaskiptaaðgerða á offtu og sykursýki 2.
Aðferðir
Fengin voru gögn frá BAriatic surgery SUbstitution and Nutrition study sem er framsýn ferilrannsókn í Svíþjóð Þátttakendum með BMI ≥ 35 kg/m² var safnað frá 2015-2017. Meðferðarúrræðin voru Roux-en-Y magahjáveituaðgerð (RYGB), magaermi (SG) eða VLED. Þýðið í þessari rannsókn eru þeir 149 einstaklingar sem voru með sykursýki 2 í byrjun rannsóknartímabilsins. Eftirfylgd var 5 ár. Notað var ANOVA-próf og Turkeys post- hoc greiningu til að bera saman hópa.
Niðurstöður
Alls luku 83 einstaklingar 5 ára eftirliti. Meðal þyngdartap í RYGB hópnum var 25,6%, 22% eftir SG og 9,2% eftir VLED. HbA1c var marktækt lægra hjá skurðaðgerðahópunum samanborið við VLED (p < 0.001) eftir 5 ár. Meðal HbA1c lækkun eftir VLED var < 2 mmól/mól. Enginn marktækur munur var á milli RYGB og SG (p = 0.806). 28 manns voru enn í sjúkdómshléi á sykursýki eftir 5 ár (17 RYGB, 9 SG og 2 VLED).
Ályktanir
Þrátt fyrir að meðferð með VLED skili viðvarandi þyngdartapi hjá einstaklingum með offtu og sykursýki til lengri tíma hafa efnaskiptaaðgerðir þó betri langtímaáhrif á þyngd og blóðsykurstjórnun og eru áfram mikilvægur meðferðarkostur fyrir þennan sjúklingahóp.
pensilínofnæmis á Íslandi – Getum við gert betur?
Alrún María Skarphéðinsdóttir1,2,3
Dóra Thorsteinsson2
Siggeir F Brynjólfsson1,3
Hildur Sigurgrímsdóttir3
Kristján Erlendsson2,3
Kristján Jónasson4
María I Gunnbjörnsdóttir2
Björn Rúnar Lúðvíksson1,3
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir1,2,3
1Læknadeild Háskóla Íslands
2Göngudeild ofnæmislækninga A3, Landspítalinn
3Ónæmisfræðideild Landspítalans 4Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Inngangur
Ferlið til að greina pensilín ofnæmi er langt og tímafrekt og mikill földi fólks er á biðlista til að fá greiningu. Ef einstaklingur er með merkt pensilín ofnæmi þarf að nota aðrar tegundir sýklalyfa sem eru yfrleitt ekki kjörlyf við sýkingunni, eru breiðvirkari og dýrari.
Markmið
Að athuga hvort hægt sé að stytta greiningarferil pensilín ofnæmis.
Aðferðir
Rannsakaðir voru förutíu og einn einstaklingur sem gengist höfðu undir greiningarferli pensilínofnæmis á ofnæmisgöngudeild Landspítalans. Notaður var PEN-FAST spurningalisti til að fá upplýsingar um ofnæmisviðbrögð þar sem <3 stig telst litil áhætta en >3 stig meðal eða mikil áhætta. Blóðprufa var tekin og gerð blákirninga örvunarpróf (Basophil activation test, BAT) og eitilfrumu umbreytingarpróf (lymphocyte transformation test, LTT) á ónæmisfræðideildinni. Ræsing blákyrninga og T-eitilfruma var metin með frumufæðissjá.
Niðurstöður
Af þessum förutíu og einum einstaklingi voru tuttugu og tveir með staðfest pensilínofnæmi skv. IgE mælingu með blóðpróf/húðpróf eða lyfaþolpróf. Sextán einstaklingar voru með þrjú eða feiri stig samkvæmt PEN-FAST spurningalistanum sem gefur 72% næmi og 26% sértækni. Fjórir einstaklingar voru með jákvætt BAT-próf, sem gaf 20% næmi og 77,8% sértækni, og níu einstaklingar voru með jákvætt LTT-próf, sem gaf 40,9% næmi og 72% sértækni.
Ályktanir
PEN-FAST spurningalistinn hefur ágætt næmi, en lága sértækni og gæti því verið gagnlegur til að stytta greiningarferli pensilínofnæmis. Út frá þessum niðurstöðum má sjá að næmi er lágt fyrir bæði BAT og LTT en sértæknin er ágæt. Það er ljóst að frekari rannsókn með stærra úrtaki er nauðsynleg til að staðfesta áreiðanleika þessara prófa.
Umsjónarkennari: Sæmundur Rögnvaldsson
Mænutaugahrörnun (SMA) á Íslandi
Anna Sif Mainka Sveindóttir1
Ólöf Jóna Elíasdóttir1,2
Ólafur Árni Sveinsson 1,2 Brynhildur Thors1
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland ²Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Mænutaugahrörnun eða Spinal Muscular Atrophy (SMA) er sjúkdómur sem einkennist af niðurbroti frumna í framhorni mænu sem leiðir til ágengrar samhverfrar lömunar vöðva í útlimum og búk. Seinni hluta ársins 2023 var lyfameðferð við SMA gerð aðgengileg fullorðnum, eftir að hafa verið einungis aðgengilegt börnum frá árinu 2018 og er hún ein sú dýrasta í heimi.
Markmið
Kanna nýgengi og algengi SMA eftir innleiðingu erfðagreiningar sem megin greiningaraðferð. Einnig var árangur eins-árs skoðaður frá upphaf meðferðar hjá sjúklingum sem hófu meðferð á fullorðinsaldri.
Aðferðir Gögn voru fengin afturvirkt úr sjúkraskrám Landspítala. Notast var við staðlaða kvarða sem meta hreyfgetu sjúklinga með SMA; HFMSE, RULM, EK2. Lungnastarfsemi var metin með spirometríu. Nýgengi var áætlað fyrir tímabilið 1997–2024 og algengisdagur var 1. janúar 2025.
Niðurstöður Á rannsóknartímabilinu fæddust 17 einstaklingar með SMA sem gaf nýgengið 13.9/100.000. Á algengisdegi voru 23 einstaklingar á líf með SMA á Íslandi. Algengið var 5,9/100.000, tólf einstaklingar hófu meðferð á fullorðinsaldri, allir hófu meðferð með Risdiplam. Í hreyfprófunum var að meðaltali bæting um 2 stig (bil:0-10) í HFMSE og á RULM 0,73 (0-3) á hægri og 1,36 (0-4) á vinstri hendi. Lugnaprófn sýndu að meðaltali 3% (-6-7%) bætingu í FVC, 4% (-19-15%) bætingu í MIP og 7% (-3-34%) bætingu í MEP. Enginn sjúklingur upplifði versnandi sjúkdóm á meðferðartímabilinu; átta sjúklingar greindu frá jákvæðum áhrifum eins og auknu úthaldi yfr daginn og auknum vöðvastyrk. Þrír greindu frá vægum aukaverkunum.
Ályktanir
Niðurstöðurnar benda til þess að lyfagjöf með Risdiplam hjá fullorðnum einstaklingum með
SMA sé örugg og hægi á framgangi sjúkdómsins.
Alvarlegar lungnabólgur með fylgikvilla ígerða í lungum eða fleiðruholi hjá börnum
Anna Valgerður Oddsdóttir1
Óli Andri Hermannsson2
Helga Elídóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Barnaspítali Hringsins, Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Alvarleg lungnabólga er sýking með fylgikvilla s.s. ígerða í lungum, ígerða í feiðruholi eða lungnadreps. Þetta eru sjaldgæfar og alvarlegar sýkingar, sem þarf að greina skjótt til að hefa viðeigandi meðferð með sýklalyfum, tæmingu ígerða með brjóstholskera og fíbrínólýsu.
Markmið
Að kanna meingerð, fylgikvilla og meðferð alvarlegra lungnasýkinga og meta hvort snemmtæk meðferð með fíbrínólýsu stytti innlagnartíma eða tíma með brjóstholskera.
Aðferðir
Afturskyggn lýsandi rannsókn sem náði til barna að 18 ára aldri sem lögðust inn á Barnaspítala Hringsins með alvarlega lungnabólgu 2015-2024. Leitað var í sjúkraskrám með ICD-10 greiningarkóðum lungnabólgu og tengdum fylgikvillum og upplýsingum alvarlegra tilfella safnað
Niðurstöður
Alls voru 50 börn með alvarlega lungnabólgu, fest 2022 (n=13), og fæst 2021 (n=1). Flest voru 5 ára og yngri (n=35). Greiningarkóðar reyndust ófullnægjandi í 67% tilfella. Streptococcus pneumoniae og Streptococcus pyogenes voru algengustu sýklarnir. Algengasta myndgreiningin var tölvusneiðmynd. Heildarlengd sýklalyfameðferðar var 10-47 dagar (miðgildi 22). Alls fengu 43 börn brjóstholskera og 32 börn fíbrínólýsu. Snemmtæk meðferð fíbrínólýsu hafði ekki marktæk áhrif á innlagnartíma (p=1) eða tíma með brjóstholskera (p=0.57), en börn sem fengu fíbrínólýsu voru lengur með brjóstholskera (p=0.0048). Alls fengu 11 (22%) fylgikvilla, loftbrjóst var algengast (n=4).
Ályktanir
Mikil aukning varð á tilfellum alvarlegrar lungnabólgu 2022, í lok COVID-19 faraldursins. Snemmtæk meðferð hafði ekki áhrif á innlagnartíma eða tíma með brjóstholskera, en hóparnir voru litlir sem takmarkar getu til að greina mun. Börn sem fengu fíbrínólýsu meðferð voru lengur með brjóstholskera, líklega vegna alvarlegri veikinda og/eða stærri feiðruholsígerðar. Þörf er á frekari rannsóknum og bæta þarf skráningu greiningarkóða.
Nýgengi, orsakir og afleiðingar
Anna Þóra Jóhannsdóttir1
María Björk Baldursdóttir3 Einar Stefán Björnsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland, 3Karolinska háskólasjúkrahús
Inngangur
Langvinn brisbólga er trefunar- og bólgusjúkdómur í brisinu hjá einstaklingum með umhverfstengda áhættuþætti sem þróa með sér stöðugt svar við skaða og getur haft áhrif á starfsemi brissins. Nýgengið á Norðurlöndunum er u.þ.b 13 á 100.000 persónuár.
Markmið
Að kanna nýgengi, aldur, kyn, orsakir og áhættuþætti, afeiðingar, meðferð og lifun sjúklinga með langvinna brisbólgu. Einnig að rannsaka hversu stór hluti greindist án þess að hafa áður fengið bráða brisbólgu.
Aðferðir
Rannsóknin er afturskyggn þýðisrannsókn. Gögn voru fengin úr rafrænum sjúkragögnum Landspítala. Kennitölur fengust með ICD-10 kóðunum K86.0 og K86.1 20162024. Greiningarnar voru staðfestar með greiningarskilyrðum M-ANNHEIM.
Niðurstöður
Alls greindust 36 einstaklingar með langvinna brisbólgu á rannsóknartímabilinu og meðaltal nýgengis á 100.000 íbúa var 1,1 árlega. Miðgildi aldurs var 61 ár, 69% karlar. Algengasta orsök langvinnrar brisbólgu var alkóhól. Alls voru 28 manns (78%) sem fengu bráða brisbólgu fyrir greiningu á langvinnri brisbólgu. Algengasti fylgikvillinn var sýndarblaðra (e. pseudocyst), 8 manns (22%) fengu sykursýki og 13 manns (36%) fengu vanstarfsemi útkirtilsins. Átta (22%) greindust með langvinna brisbólgu án þess að hafa áður fengið bráða brisbólgu. Alls fengu 19 (53%) Creon uppáskrifað og 15 (42%) þurftu sérhæfða speglunarmeðferð ss. stoðnet og aftappanir.. Tíu (28%) létust og lifun var 61% eftir 5 ár.
Ályktanir
Niðurstöður sýndu að nýgengið hérlendis er fremur lágt miðað við nýgengi í nágrannaríkjunum. Þar sem þetta er fyrsta rannsóknin á langvinnri brisbólgu á Íslandi gefur þessi rannsókn tækifæri á að fylgjast áfram með þróun og byrði sjúkdómsins hérlendis á næstu árum.
Viðbótarmeðferð í brjóstakrabbameini og meðferðarheldni innkirtlameðferðar árin 2013-2015
Aníta Sól Valdimarsdóttir1
Ólöf Kristjana Bjarnadóttir2
Stefanía Katrín Finnsdóttir2
Sigurdís Haraldsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Innkirtlameðferð er stöðluð viðbótarmeðferð í hormónajákvæðu brjóstakrabbameini á stigi I- III eftir skurðaðgerð. Meðferðin, sem gefn er í 5-10 ár, lækkar endurkomutíðni og eykur lifun. Helstu lyfn eru Tamoxifen og arómatasahemlar en ýmsar aukaverkanir geta fylgt þeim og haft áhrif á meðferðarheldni þessara lyfa.
Markmið
Að meta meðferðarheldni viðbótarinnkirtlameðferðar hjá brjóstakrabbameinssjúklingum sem greindust árin 2013-2015. Forspárþættir meðferðarheldni verða skoðaðir, sem og áhrif meðferðarheldni á heildarlifun og sjúkdómsfría lifun.
Aðferðir
Rannsóknin er afturskyggn ferilrannsókn. Fengin voru gögn frá Krabbameinsskrá um alla sem greindust með brjóstakrabbamein á Íslandi árin 2013-2015, Lyfagagnagrunni Landlæknis um lyf og lyfaútleysingar og Dánarmeinaskrá Landlæknis. Einnig var gögnum safnað úr sjúkraskrám. Meðferðarheldni var skilgreind sem lyfaútleysing Tamoxifen og/eða arómatasahemla í fmm ár eða fram að dánardegi/endurkomudegi brjóstakrabbameins. Sjúklingur taldist meðferðarheldinn hafði hann leyst út lyf fyrir ≥80% af tímabilinu. Við tölfræðiúrvinnslu var notuð lýsandi tölfræði, tvíundargreining og Kaplan-Meier lifunargreining.
Niðurstöður 466 sjúklingar uppfylltu inntökuskilyrði rannsóknarinnar. Viðbótarinnkirtlameðferð var ráðlögð öllum sjúklingunum en 13 höfnuðu meðferðinni. Eftir skurðaðgerð fengu 32,6% krabbameinslyfameðferð og 58,6% geislameðferð. Meðal þeirra sem fengu viðbótarinnkirtlameðferð (N=453) fengu 56,1% arómatasahemil og 43,9% tamoxifen. Alls reyndust 333 sjúklingar (71,5%) meðferðarheldnir á tímabilinu. Tvíundargreining sýndi fram á að krabbameinslyfameðferð eftir skurðaðgerð væri marktækur forspárþáttur meðferðarheldni (0.89, ÖB:0.80-0.99, p=0.03). Ekki mældust marktæk tengsl milli meðferðarheldni og heildarlifunar (p = 0.19) eða sjúkdómsfrírrar lifunar (p = 0.12).
Ályktanir
Um þriðjungur reyndist ekki meðferðarheldinn á tímabilinu. Bæta þarf meðferðarheldni þessa sjúklingahóps og gæti þar aukin sjúklingafræðsla um mikilvægi meðferðarinnar og bjargráð við aukaverkunum stuðlað að aukinni meðferðarheldni.
Samanburður milli
kviðsjár- og þjarkaaðgerða við ristilpokabólgu
Brynja Sævarsdóttir1
Theódór Ásgeirsson2
Páll Helgi Möller1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Kviðarholsskurðdeild Landspítala
Inngangur
Aðgerðir vegna ristilpokabólgu geta verið framkvæmdar með opinni tækni, kviðsjá eða þjarka. Með tilkomu kviðsjár hefur árangur aðgerða við ristilpokabólgu breyst til batnaðar samanborið við opnar aðgerðir þegar litið er til bata sjúklinga og legutíma. Þrátt fyrir kosti og tækniframfarir sem komið hafa með þjarka, hefur ekki verið sýnt fram á yfrburði þess samanborið við hefðbundnar kviðsjáraðgerðir við ristilbrottnám.
Markmið
Markmið þessarar rannsóknar er að skoða valaðgerðir vegna ristilpokabólgu í þjarka og kviðsjá á Landspítala og bera saman árangur og kostnað þessara tveggja aðgerðategunda.
Aðferðir
Framkvæmd var afturskyggn ferilrannsókn. Upplýsingar um sjúklinga sem fóru í vinstra ristilbrottnám vegna ristilpokabólgu á tímabilinu 2021 til 2025 voru fengnar úr sjúkrasögukerf og aðgerðarkerf (ORBIT) Landspítala. Breytur voru skráðar í excel og unnin var tölfræðivinnsla í forritinu R.
Niðurstöður Alls fóru 112 sjúklingar í valaðgerð vegna ristilpokabólgu, þar af 54 í þjarka og 58 í kviðsjá. Niðurstöður rannsóknar sýndu marktækt lægri tíðni fylgikvilla eftir aðgerð í þjarka samanborið við kviðsjá (17% sbr 35%, p=0.016, OR=0.20) og einnig skemmri tíma þar til hafðar voru hægðir eða loft losað eftir aðgerð (1.38 sbr 2.04 dagar, p=0.003).
Marktækur munur var einnig á aðgerðartíma (185.3 ± 55.1 mín í þjarka sbr. 157.9 ± 50.2 mín í kviðsjá, p=0.006). Ekki fannst marktækur munur á breytingu í opna aðgerð (p=0.14, OR=0.17), né lengd spítaladvalar (p=0.76). Heildarkostnaður var svipaður milli þjarka og kviðsjáraðgerða (3.970.276 kr í þjarka sbr. 3.848.020 kr í kviðsjá).
Ályktanir
Þessi rannsókn sýnir að notkun þjarka við valaðgerðir vegna ristilpokabólgu er örugg og geti leitt til betri árangurs samanborið við kviðsjá, einkum þegar horft er til fylgikvilla aðgerðar og bata sjúklinga. Aðgerðartími í þjarka er lengri en virðist ekki auka kostnað við þessar aðgerðir. Þessar niðurstöður styðja frekari notkun þjarka við valaðgerðir vegna ristilpokabólgu.
Meðferðarheldni við síðforvarnir eftir kransæðahjáveituaðgerð og tengsl við langtímahorfur
Böðvar Páll Ásgeirsson1
Leon Arnar Heitmann1
Karl Andersen1,2
Tómas Guðbjartsson1,3
1Læknadeild Háskóla Íslands, ²Hjartadeild Landspítala, 3Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala
Inngangur Í kjölfar kransæðahjáveituaðgerðar mæla klínískar leiðbeiningar með statínum fyrir alla sjúklinga og beta-blokka og renínangíótensín (RAS) hemla fyrir festa í síðforvarnaskyni. Sýnt hefur verið að þessir lyfafokkar bæta langtímahorfur eftir aðgerð en meðferðarheldni er þó ábótavant.
Markmið
Kortleggja árhif meðferðarheldni við síðforvarnir á langtímahorfur eftir kransæðahjáveituaðgerð
Aðferðir
Afturskyggn ferilrannsókn á sjúklingum sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á Landspítala og lifðu >90 daga árin 2007-2022. Upplýsingar fengust úr gagnagrunni hjarta- og lungnaskurðdeildar Landspítala og lyfagagnagrunni landlæknis. Fyrir hvern lyfafokk var aðgengi að lyf ≥80% daga fyrstu fmm árin eftir aðgerð skilgreint sem meðferðarheldni. Tengsl meðferðarheldni við dánartíðni og MACCE voru metin með aðferð Kaplan-Meier og Cox aðhvarfsgreiningu.
Niðurstöður Heildarföldi sjúklinga var 1544. Tíðni meðferðarheldni var 82,5% fyrir statín, 45,3% fyrir beta-hemla og 58.1% fyrir renínangíótensín hemla. Lifunargreining sýndi að meðferðarheldni við statín (HH: 0.69, 95% ÖB: 0.53-0.90) tengdist marktækt lægri dánartíðni, en ekki við beta- hemla (HH: 0.94 ÖB: 0.75-1.18) eða RAS-hemla (HH:0.78, ÖB: 0.59-1.02). Meðferðarheldni við statín (HH: 0.75, ÖB: 0.56-1.00) tengdist lægri tíðni MACCE, en ekki við beta-hemla (HH: 1.01, ÖB: 0.79-1.29) eða RAS-hemla (HH: 1.02, ÖB: 0.76-1.38). Við undirhópagreiningu reyndust áhrif statína á MACCE marktækt aukin í sjúklingum með fyrra hjartaáfall. Áhrif beta- blokka á dánartíðni og MACCE voru aukin í sjúklingum með háþrýsting eða skert útfallsbrot.
Ályktanir
Langtíma meðferðarheldni við statín bætir lifun eftir kransæðahjáveitu, en meðferðarheldi við beta-blokka og RAS-hemla var lág og sýndi aðeins ávinning í afmörkuðum hópi sjúklinga. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi meðferðarheldni kransæðasjúklinga og einstaklingsmiðaðrar lyfameðferðar.
Árangur skurðmeðferðar við lungnameinvörpum á Íslandi
Carlos Magnús Rabelo1
Halla Viðarsdóttir1,2
Luis Gísli Rabelo1
Tómas Guðbjartsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Lungnameinvörp eru algeng í útbreiddu krabbameini og tengjast yfrleitt slæmum horfum. Einstaka sjúklingar sem greinast með lungnameinvörp gangast undir lungnaskurðaðgerð
Markmið
Meta árangur og þróun skurðaðgerða við lungnameinvörpum á Íslandi.
Aðferðir
Afturskyggn ferilrannsókn sem náði til allra sjúklinga sem gengust undir skurðmeðferð við lungnameinvörpum á Landspítala frá z2001-2021. Gögnin fengust úr sjúkraskrám. Rannsóknartímabilinu var skipt í þrjú 7-ára tímabil og þau borin saman. Lifun var áætluð með Kaplan-Meier greiningu og forspárþættir lifunar með Cox-aðhvarfsgreiningu. Meðaleftirfyldartími var 5,7 ár og var lifunin metin út frá fyrstu skurðaðgerðinni.
Niðurstöður Alls voru 179 skurðaðgerðir framkvæmdar á 144 sjúklingum vegna lungnameinvarpa; 140 (78,2%) sem fyrsta brottnám og 39 (21,8%) sem annað/þriðja brottnám vegna endurkomu lungnameinvarpa. Tæplega helmingur aðgerðanna (46,4%) voru framkvæmdar á síðasta þriðjungi rannsóknartímabilsins (2015-2021) en 26,8% á því fyrsta (2001-2007). Á meðal sjúklinga sem undirgengust sínu fyrstu aðgerð var miðgildi aldurs 62 ár og meinvörp frá ristils- og endaþarmskrabbameini algengasta ábendingin (39,2%), en nýrnafrumukrabbamein (16,4%) og sarkmein (9,7%) komu þar á eftir. Tíðni alvarlega snemmkominna fylgikvilla var 3,4% og 30-daga dánartíðni 1,1%. Fimm-ára lifun á fyrsta tímabilinu (2001-2007) var 31,4% samanborið við 55,3% á síðasta tímabilinu (2015-2021) (p=0,031). Í fölþáttagreiningu reyndist hærri aldur, aðgerð framkvæmd á fyrsta tímabilinu, aukin földi meinvarpa og sarkmein tengjast hærri dánartíðni.
Ályktanir
Fjöldi skurðaðgerða við lungnameinvörpum hefur aukist á Íslandi og langtímalifun batnað, sem sennilega stafar af betra vali á sjúklingum og framförum í krabbameinslyfameðferðum. Tíðni alvarlegra snemmkominna fylgikvilla er lág og 5-ára lifun sambærileg því sem hefur verið greint frá í erlendum rannsóknum.
Algengi hálsáverka hjá eldra fólki með heilaáverka
Dagur Björn Benediktsson1 Rasmus Strandmark2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Heilaáverkar er algeng orsök sjúkrahúsinnlagna hjá eldra fólki, oft af völdum lágorkuáverka, einkum falls. Þrátt fyrir að áhersla sé lögð á afeiðingar heilaáverka getur fylgikvillum eins og hálsáverkum verið minna sinnt og þeir mögulega vangreindir. þrátt fyrir aldurstengdar breytingar á beinþéttni og sveigjanleika hálshryggjar auki líkur á slíkum áverkum.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar er að kanna algengi hálsáverka hjá öldruðum sjúklingum með heilaáverka á bráðamóttöku Landspítala og skoða hvort hægt sé að notast við klínísk tákn í greiningu þeirra.
Aðferðir
Rannsóknin er afturvirk og byggir á gögnum frá Embætti landlæknis og Landspítala fyrir árin 2010-2024. Úr heildarþýði sjúklinga með áverka á bráðamóttöku voru annars vegar einangraðir þeir sem greindust með heilaáverka og hins vegar með hálsáverka. Þeir síðarnefndu voru skoðaðir sérstaklega til að kanna hvort ógreindur heilaáverki hefði átt sér stað og til að skrá niður aldur við komu, áverkaorsök, klínísk einkenni, meðferð og hvort viðkomandi var lagður inn og ef svo, þá á hvaða deild.
Niðurstöður
Alls uppfylltu 1346 sjúklingar skilyrði rannsóknarinnar, þar af 24 (1.8%) með hálsáverka. 52% voru karlkyns og meðalaldur 76 (SD = 8.02) var Af þeim 24 sem voru með heilaáverka og hálsáverka voru 8 (33%) ekki skráðir með heilaáverka í sjúkraskrá. Algengustu áverkaorsakirnar voru fall (25.0%) og bílslys (20.8%). 28.1% sögðust vera með verk í hálsi og 21.9% voru með eymsli yfr miðlínu.
Ályktanir
Hálsáverkar greindust hjá litlum hluta eldra fólks með heilaáverka á bráðamóttöku, en í um þriðjungi tilfella með hálsáverka vantaði skráningu á heilaáverka þrátt fyrir skýrar vísbendingar. Klínískt einkenni komu ekki nægilega oft fram til að ná fram nægilegri næmni. Niðurstöður styðja að þörf sé á skýrari verklagi og ítarlegri skoðun á mögulegum hálsáverka hjá öldruðum með heilaáverka, sérstaklega þegar áverkaorsök er fall eða umferðarslys. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar til að meta greiningargildi einstakra klínískra einkenna.
Nikótínnotkun á meðgöngu og möguleg áhrif á nýbura
Daníela Björg Stefánsdóttir1 Þórður Þórarinn Þórðarson1,2 Snorri Donaldsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Barnaspítali Hringsins, Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Ekki er ljóst hversu algengt það er að mæður neyti nikótíns á meðgöngu eða hvaða áhrif það hefur á nýbura. Rannsóknir benda til tengsla milli nikótínnotkunar á meðgöngu og lægri fæðingarþyngdar, fyrirburafæðinga, öndunarerfðleika og vöggudauða.
Markmið
Að kanna algengi nikótínnotkunar snemma á meðgöngu og í lok meðgöngu meðal mæðra sem fæða á Landspítala, tíðni innlagna á Vökudeild hjá börnum útsettum fyrir nikótíni og hvort þessi börn séu með lægri fæðingarþyngd eða sýni fráhvarfseinkenni.
Aðferðir
Afturskyggn rannsókn þar sem gögn voru sótt úr barnablöðum, mæðraskrá og sjúkraskrá. Rannsóknarþýðið náði til barna sem fæddust á Landspítala 01.01.2023-31.01.2024. Börn sem urðu fyrir nikótínáhrifum voru borin saman við samanburðarhóp. Marktækni var metin með fölbreyttum tölfræðiprófum (p<0.05).
Niðurstöður 6,9% kvenna notuðu nikótín snemma á meðgöngu, en 0,5% við lok meðgöngu. Meðgöngutími kvenna sem reyktu snemma á meðgöngu var að meðaltali 4 dögum styttri (p=0.018) en samanburðarhópur og 9,7 dögum styttri (p=0.015) hjá konum sem reyktu í lok meðgöngu miðað við samanburðarhóp. Börn mæðra sem reyktu í lok meðgöngu vógu að meðaltali 423g minna en börn sem ekki voru útsett (p=0.008). Tengsl fundust við öndunarerfðleika eftir fæðingu hjá börnum þar sem móðir notaði nikótín snemma á meðgöngu (p=0.038).
Ályktanir
Niðurstöður benda til að festar konur hætti nikótínnotkun á meðgöngu en möguleiki er þó á því að skráning í lok meðgöngu sé ábótavant, auk þess að það gæti verið að konur gef ekki upplýsingar um nikótínnotkun í lok meðgöngu. Börn útsett fyrir nikótíni eru líklegri til að fæðast fyrir tímann, vera með lægri fæðingarþyngd og eru gjarnari á að vera með öndunarerfðleika sem getur bent til að fráhvarfseinkenni séu til staðar.
Graftarkýli í lifur – faraldsfræði, orsakir, meðferð og afdrif
Edda Sólveig Sigtryggsdóttir1
Kristján Orri Helgason2
Sigurður Ólafsson3
Magnús Gottfreðsson1,4
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Sýkla- og veirufræðideild Landspítala, Reykjavík, Ísland
3Meltingardeild Landspítala, Reykjavík, Ísland
4Smitsjúkdómadeild Landspítala, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Graftarkýli í lifur (e: pyogenic liver abscess) eru sjaldgæf en geta verið fókin í greiningu og alvarleg. Fyrri rannsóknir eru af skornum skammti, en hafa sýnt breytileika í nýgengi og sýklafræðilegum orsökum milli landsvæða. Engar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á þessum sjúkdómi hérlendis svo vitað sé.
Markmið Að afa upplýsinga um nýgengi, birtingamynd, orsakir, meðferð og afdrif sjúklinga sem greinst hafa með graftarkýli í lifur á Íslandi á árunum 2012-2024.
Aðferðir Fenginn var listi yfr alla sjúklinga sem fengu greiningu með ICD-10 kóða K75 eða A06.4 á árabilinu 2012-2024 á Landspítala. Farið var yfr sjúkraskrárgögn þeirra og sjúklingar sem reyndust hafa verið með lifrarígerðir síaðir út. Skráðar voru klínískar upplýsingar um einkenni, rannsóknarniðurstöður, meðferð og afdrif þeirra.
Niðurstöður 315 sjúklingar voru í upphafsúrtaki. Eftir að hafa útilokað rangar greiningar og ferðamenn samanstóð lokaúrtakið af 92 sjúklingum sem höfðu fengið greiningarkóða K75.0 eða A06.4 á Landspítala á árunum 2012-2024. Miðað við þær forsendur að Landspítali annist 90% allra sjúklinga á landinu má námunda að nýgengi sé að meðaltali 2,3 tilfelli per 100.000 íbúa á ári. Nýgengi hækkaði um 0,11 tilfelli milli ára en það reyndist ekki marktækt. Meirihluti (56,5%) sjúklinga voru karlkyns og meðalaldur 66,1 ár. Algengustu einkenni sýkingarinnar voru slappleiki, verkir/eymsli í kvið og hiti. E. coli, Enterococcus spp. og Streptococcus anginosus hópur reyndust vera algengustu sýklafræðilegu orsakavaldar. 30-daga lifun eftir greiningu var að meðaltali 94,3%.
Ályktanir
Meðalaldur og kynjahlutfall virðast vera svipuð fyrir sjúkdóminn á alþjóðavísu. Nýgengi hérlendis er sambærilegt því sem er að fnna á Vesturlöndum.
Reykingar meðal sjúklinga með kransæðastíflu. Samanburður við almennt þýði
Eiríkur Kúld Viktorsson1
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir1,2
Kristján Harðarson1,1 Vilmundur Guðnason 1,3, Karl Konráð Andersen1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Landspítali, Reykjavík, Ísland
3Hjartavernd, Reykavík, Ísland
Inngangur
Á undanförnum 35 árum hefur algengi reykinga í almennu þýði lækkað um 82% og er nú um 6%. Ekki er vitað hvernig algengi reykinga hjá kransæðasjúklingum hefur breyst á undanförnum árum samanborið við almennt þýði.
Markmið
Að bera saman algengi reykinga meðal sjúklinga með bráða kransæðastífu við almennt þýði á tímabilinu 2009-2022 og meta hvort vísbendingar séu um að lýðheilsuinngrip og forvarnaraðgerðir haf síður náð til kransæðasjúklinga en annarra.
Aðferðir
Lýðheilsuvísar voru mældir af Embætti Landslæknis í rannsókninni Heilsa og Líðan á Íslandi á tveggja til fmm ára fresti á árabilinu 2009 - 2022, alls 25.477 svarendur. Á meðal lýðheilsuvísa voru að fnna gögn um reykingavenjur. Í SCAAR gagnagrunni hjartadeildar voru fengnar upplýsingar hjá 8.516 sjúklingum með bráða kransæðastífu á tímabilinu 2009- 2022. Í þeim gagnagrunni eru áhættuþættir kransæðasjúklinga skráðir. Borið var saman algengi reykinga meðal almennings og kransæðasjúklinga.
Niðurstöður Algengi reykinga árin 2009 og 2022 var 15.7% og 11.3% meðal almennings, en 27.3% og 21.4% meðal kransæðasjúklinga. Sé sundurliðað gögn sem snúa að kransæðasjúklingum sést að algengi reykinga árin 2009 og 2022 var 42.2% og 28.5% meðal STEMI sjúklinga en meðal sjúklinga með NSTEMI eða hvikula hjartaöng 22.2% og 18.0%
Ályktanir
STEMI sjúklingar reykja mun meira samaborið við aðra kransæðasjúklinga og lækkar algengi reykinga meira milli ára. Hjá sjúklingum með NSTEMI eða hvikula hjartaöng fækkar reykingamönnum hægar og vekur það upp spurningar varðandi reykleysisfræðslu og fíknihegðun viðkomandi. Þá er hlutfall fyrrum reykingamanna meðal þeirra langhæst og umhugsunarefni hvort fyrrum reykingamenn séu útsettari fyrir öðrum tegundum bráðrar kransæðastífu en STEMI.
Nýgengi skurðsárasýkinga eftir krabbameinsaðgerð á brjóstum árin 2022-2024 á LSH
Embla Þöll Einarsdóttir1 Þórhildur Halldórsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna á Íslandi. Algengi skurðsárasýkinga eftir krabbameinsaðgerðir á brjóstum í heiminum eru um 4,9 – 11,8 %. Engin gögn eru til um það hver tíðnin er á Landspítalanum né á Íslandi.
Markmið
Að kanna nýgengi skurðsárasýkinga eftir krabbameinsaðgerðir á brjóstum innan Landspítalans á árunum 2022-2024.
Aðferðir
Fengin voru gögn úr Orbit um alla þá sjúklinga sem fóru í krabbameinsskurðaðgerð á brjóstum á árunum 2022 – 2024. Gögn um hvort sjúklingar fengu sýklalyf eða ekki var safnað frá Sögukerfnu. Ekki var tekið með þá sem fengu sýklalyf í verndandi skyni vegna drens eða þenslu og þá sem voru með sýkingu í öðru líffærakerf. Sjúklingar sem fengu sýklalyf milli 3-30 eða 90 daga frá aðgerð eftir því hvort þau fengu íhlut í aðgerð eða ekki voru fokkaðir út frá upplýsingum um skurðsár í nótu í Sögukerfnu. Flokkarnir voru þrír: enginn, veikur og sterkur grunur. Þessi staðall var byggður á skilgreiningu CDC á skurðsárasýkingu.
Niðurstöður 905 sjúklingar voru með í rannsókninni. 119 af þeim eða 13,15% fengu sýklalyf vegna einkenna eftir aðgerð. Enginn grunur um skurðsárasýkingu er því 0.99% , veikur grunur er 7.73%, sterkur grunur er 3.76% og ekki vitað 0.66% af öllu þýðinu.
Ályktanir
Nýgengi á Íslandi er 13,15% ef gengið er út frá því að allir sem fengu sýklalyf voru með sýkingu, 11.49% ef aðeins þau sem voru með veikan og sterkan grun um sýkingu skv CDC sýkingagrunns skalanum voru talin með Ef aðeins er talið þá með sterkan grun um sýkingu er nýgegnið 3.76%.
Aðgerðir vegna meinvarpa hjá sjúklingum sem gengust undir aðgerð á endaþarmskrabbameini á Íslandi 2010-2019
Erla Figueras Eriksdóttir1
Kristín Huld Haraldsdóttir1,2 Þórður Tryggvason2
Halla Viðarsdóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali Háskólasjúkrahús, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Endaþarmskrabbamein er áttunda algengasta krabbameinið á heimsvísu og að meðaltali greinast 45 einstaklingar árlega með sjúkdóminn á Íslandi. Um 20% sjúklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein hafa farmeinvörp við greiningu og 14-34% fá síðkomin meinvörp.
Markmið
Að kanna tíðni meinvarpa hjá einstaklingum sem gengust undir skurðaðgerð vegna endaþarmskrabbameins á árunum 2010-2019. Skoða meðferð og lifun með sérstakri áherslu á lifrar- og lungnameinvörp.
Aðferðir
Upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrárkerfum Landspítala. Lifun var metin með Kaplan- Meier aðferðinni og hópur sjúklinga með og án meinvarpa bornir saman.
Niðurstöður Alls gengust 243 einstaklingar undir aðgerð vegna endaþarmskrabbameins á rannsóknartímabilinu, af þeim fengu 69 (28,4%) endurkomu sjúkdóms. 23 fengu lifrarmeinvörp, 11 lungnameinvörp (5 hvoru tveggja), 17 staðbundna endurkomu og 23 fengu dreifð meinvörp. Meðalsjúkdómsfrí lifun fram að greiningu meinvarpa var 1,2 ár (95% CI: 0,8-1,7 ár). Af þeim sem fengu meinvörp fóru 39 (56,5%) í aðgerð. Fimm ára lifun var 93,7% fyrir sjúklinga án endurkomu, 71,8% hjá þeim sem fóru í aðgerð vegna meinvarpa og 10,0% hjá þeim sem fóru ekki í aðgerð á meinvörpum. Lifun var sambærileg fyrir þá sem fóru í aðgerð vegna lifrarmeinvarpa og lungnameinvarpa. Lægri aldur, hærra pNstig og hækkað CEA-blóðgildi reyndust hafa forspárgildi fyrir endurkomu sjúkdóms í fölbreytugreiningu.
Ályktanir
Þriðjungur sjúklinga sem fór í aðgerð vegna endaþarmskrabbameins fékk endurkomu sjúkdóms sem er í samræmi við erlendar rannsóknir. Rúmur helmingur þessara sjúklinga fór í aðgerð sem er svipað, eða aðeins hærra, hlutfall en í erlendum rannsóknum. Lifur var algengasti staður farmeinvarpa og lungu þar á eftir.
Lyfjaávísanir á væga ópíóíða. Þróun og tengsl við sjúkdóma á 15 ára tímabili
Eva Sól Einarsdóttir1
Emil Lárus Sigurðsson1,2
Hálfdán Pétursson
Jón Steinar Jónsson
Hannes Hrafnkelsson
Margrét Ólafía Tómasdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Undanfarin ár hefur notkun ópíóíða og andlát tengd þeim aukist verulega á Íslandi. Ópíóíðar eru verkjalyf sem henta vel við bráðum verkjum og krabbameinsverkjum. Lyfunum fylgir hætta á líkamlegri fíkn, þoli og ávanabindingu.
Markmið
Að kanna þróun lyfaávísana einstaklinga sem fengu ávísað vægum ópíóíðum á heilsugæslum höfuðborgarsvæðisins 2009-2013, samanborið við þá sem fengu ekki slíka ávísun. Athugað var hvort breyting var á ávísuðu magni eða styrkleika lyfa með eftirfylgd til ársins 2024.
Aðferðir
Rannsóknin var afturskyggð og náði til allra einstaklinga, 18 ára og eldri, sem leituðu á heilsugæslustöðvar höfuðborgarsvæðisins 2009-2013. Rannsóknarhópur hvers árs innihélt þá sem fengu ávísað meira en 10,0SSS af Parkódín án sterkari ópíóíða og höfðu ekki fengið ávísað ópíóíðum árin á undan. Samanburðarhópar samanstóðu af einstaklingum sem fengu 10,0SSS eða minna af Parkódín og ekkert af sterkun. Þróun ávísana var skoðuð með lýsandi tölfræði.
Niðurstöður Heildarávísanir vægra og sterkra ópíóíða (SSS/ einstakling/ári) voru feiri í rannsóknarhópum en samanburðarhópum (p<0,001). Ávísanir mjög sterkra ópíóíða (SSS/einstakling/ári) hjá hóp 2013 voru að meðaltali 0,0847SSS hjá rannsóknarhóp og 0,198SSS hjá samanburðarhóp(p=0,56). Hlutfallsleg aukning rannsóknarhóps 2013 á ávísunum Parkódíns forte milli fyrsta og seinasta árs eftirfylgdartíma var 93,8%(p=0,25) og samanburðarhóps 469,8%(p<0,001). Aukning í ávísunum tramadóls hjá sömu hópum var 187,1%(p=0,38) og 629,6% (p<0,001) og aukning í ávísunum mjög sterkra ópíóíða 195,7%(p=0,63) og 3159,5% (p<0,001).
Ályktanir Þeir sem fá ávísað vægum ópíóíðum fá marktækt feiri ávísanir á bæði væga og sterka ópíóíða árin á eftir. Ekki er marktækur munur á ávísunum mjög sterkra ópíóíða milli rannsóknar- og samanburðaróps. Hins vegar verður aukning á ávísunum ópíóíðaverkjalyfa hjá öllum hópum.
Lokastigsnýrnabilun
á Íslandi 2020 – 2024: Nýgengi, meðferð og afdrif sjúklinga
Haraldur Orri Arnarsson1
Ólafur Skúli Indriðason2
Runólfur Pálsson1,2 Ásta Dögg Jónasdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Landspítali Háskólasjúkrahús, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Lokastigsnýrnabilun (LSNB) er lífshættulegur sjúkdómur en sértæk nýrnaígildismeðferð getur bætt og lengt líf sjúklinga. Skýrsla European Renal Association frá árinu 2022 sýndi að tveggja ára lifun sjúklinga í nýrnaígildismeðferð á Íslandi var 75,7%, lakara en víða í Evrópu.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar var að skoða þætti sem tengjast lifun sjúklinga í nýrnaígildismeðferð, fylgisjúkdóma og dánarorsakir til samanburðar við aðrar Evrópuþjóðir.
Aðferðir Þetta var afturskyggn rannsókn sem náði til sjúklinga sem hófu nýrnaígildismeðferð á Íslandi á tímabilinu 2020-2024. Upplýsingar um orsök nýrnabilunar, fylgisjúkdóma, upphaf og lok skilunarmeðferðar og dánarorsök voru fengnar úr íslensku nýrnabilunarskránni og sjúkraskrám. Lifun var metin með KaplanMeier-aðferð og Cox-aðhvarfsgreiningu.
Niðurstöður Á tímabilinu hófu 191 einstaklingar yfr 18 ára nýrnaígildismeðferð, 138 karlar (72,3%) og 53 konur (27,7%). Meðalnýgengi á tímabilinu var 106,5/milljón/ári. Algengasta orsök nýrnabilunar var háþrýstingur/æðasjúkdómar (36,1%). Miðgildi (spönn) fylgisjúkdóma á hvern einstakling voru fórir (0–10), háþrýstingur (89,5%), sykursýki (29,3%) og kransæðasjúkdómur (25,1%) og hjartabilun (20,4%) algengastir. Lifun sjúklinga var 95,3% (CI 92,3%-98,3%) eftir 90 daga, 86,4% (81,5%-91,5%) eftir 1 ár , 75,6% (69,1%-82,6%) eftir 2 ár og 55,8% (46,5%-67%) eftir 4 ár. Þegar leiðrétt var fyrir aldri og kyni voru marktæk tengsl dauða við sögu um krabbamein (áhættuhlutfall 2,65, 95% öryggisbil1,23-5,71), útæðasjúkdóm (2,76, 1,22-6,28) og bráðan nýrnaskaða (2,48, 1,11-5.53). Hærra albúmín (0,93, 0,88-0,99) og meiri líkamshæð (0,95, 0,9-1,0) tengdust betri lifun.
Ályktanir
Lifun sjúklinga í nýrnaígildismeðferð hélendis er undir væntingum. Skoða þarf betur samsetningu sjúklingahópsins m.t.t. fylgisjúkdóma og annarra þátta í samanburði við evrópskt þýði til að kanna orsakir verri lifunar hér á landi.
Faraldsfræði og svipgerð Lewy sjúkdóms á Íslandi
Hekla María Arnardóttir1 Hrafnhildur Eymundsdóttir1,2 Þorgeir Gestsson2 Helga Eyjólfsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Minnismóttaka Landspítala, Landakoti
Inngangur
Lewy sjúkdómur (LBD) er næst algengasti taugahrörnunarsjúkdómurinn sem veldur heilabilun á eftir Alzheimer. Sjúkdómurinn kemur til vegna Alpha synuclein próteintrufunar (alpha-synucleinopathy) og er því náskyldur Parkinson heilabilun (PDD). Algengi sjúkdómsins er talið vera u.þ.b. 5% heilabilunartilfella og nýgengi hans á milli 0,5 - 1,6 á hver 1000 persónuár.
Markmið Rannsaka LBD á Íslandi með samanburði við PDD útfrá faraldsfræði, svipgerð og greiningaraðferðum. Einnig verður lifun skoðuð m.t.t. bakgrunnsþátta, svipgerðar og lyfanotkunar.
Aðferðir Rannsóknin náði til einstaklinga sem höfðu fengið eina af eftirfarandi greiningum samkvæmt ICD-10 fokkunarkerfnu: G21.8, F02.3, G20 + F02/F03/F06.7 á árunum 2015 - 2024. Upplýsingar voru fengnar frá Íslensku heilabilunarskránni (IceDem), Hagdeild og sögukerf Landspítala.
Niðurstöður Í gögnum frá IceDem (N=1029) voru 28 (3%) með LBD og 10 (1%) með PDD. Í gögnum Hagdeildar (N=938) voru 115 (12%) einstaklingar með LBD og 91 (10%) með PDD. Heildarföldi var því 244 einstaklinga, meðal aldur var 75 ár og 65% voru karlar. Meðal lifun frá greiningu var 3.6 ár í LBD og 3.3 ár í PDD (HR 1.15, p=0.32). Svipgerð og bakgrunnsþættir voru að mestu leiti sambærilegir milli hópa, lyfanotkun var meiri hjá PDD. Lifunargreining sýndi að áhætta á dauða jókst með aukinni inntöku á lyfum (HR 1.06, p < 0.001).
Umræða Tíðni LBD í minnismóttöku þýði er lág miðað við aðrar rannsóknir og bendir til mögulegrar vangreiningar hérlendis. Ekki reyndist marktækur munur á faraldsfræði, svipgerð, greiningaraðferðum eða lifun hópanna tveggja. Lyfanotkun var marktækt meiri hjá PDD og hafði aukin lyfanotkun tengsl við minni lifun hjá báðum hópum.
Notkun og árangur GLP-1 viðtakaörva hjá börnum með offitu eftir nýlegar ábendingar
Helena Björk Arnarsdóttir1
Berglind Jónsdóttir2
Tryggvi Helgason2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Barnaspítali Hringsins, Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Offta meðal barna er vaxandi vandamál á heimsvísu sem mikilvægt er að meðhöndla til að fyrirbyggja fylgisjúkdóma. Árið 2023 heimilaði Lyfastofnun Evrópu notkun semaglútíðs fyrir börn með offtu en ábending fyrir liraglútíð var heimiluð nokkrum árum áður. Lyfn eru GLP-1 viðtakaörvar sem aðstoða við þyngdarstjórnun með því að hafa áhrif á blóðsykurstjórnun, hægja á tæmingu magans og auka seddutilfnningu. Ísland er meðal fárra Evrópulanda sem niðurgreiða lyfn fyrir börn með offtu og því í kjöraðstöðu að meta notkun og árangur lyfanna.
Markmið
Að kanna földa og búsetu barna sem fengu semaglútíð eða liraglútíð ávísað og meta lyfanotkun, meðferðarlengd og árangur.
Aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn og náði til allra barna sem fengu semaglútíð eða liraglútíð ávísað frá og með árinu 2019. Gögn fengust frá lyfagagnagrunni embættis landlæknis. Ítarlegri gögn um takmarkaðan hóp fengust frá vöruhúsi gagna á Landspítala, úr skráningarformi Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins og rafrænum sjúkraskrám (n=39). Tölfræðin var lýsandi.
Niðurstöður
Alls fengu 157 börn semaglútíð eða liraglútíð ávísað, þar af aðeins þrjú börn búsett á Austurlandi eða Vestförðum. Aukning varð á notkun lyfanna yfr tímabilið, einkum á Wegovy frá árinu 2023. Hlutfall barna sem hættu lyfameðferð var 5,7%. Lækkun á líkamsþyngdarstuðli varð hjá 86,2% barna sem notuðu lyfð lengur en einn mánuð (n=39). Frávik í blóðgildum mældust hjá 80,0% barna fyrir lyfameðferð (n=39).
Ályktanir
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að lágt hlutfall barna með offtu haf fengið GLP-1 viðtakaörva en að lyfameðferð sé árangursrík með tilliti til þyngdarbreytinga og þolist vel. Lágt hlutfall barna á Austurlandi og Vestförðum undirstrikar nauðsyn þess að tryggja jafnt aðgengi að meðferð
Brjóst- og lendarhryggsbrot eftir háorkuáverka á Landspítala 1998-2022
Hjörtur Viðar Sigurðarson1 Þorkell Snæbjörnsson1,2 Mariella Tsirilaki3
Halldór Jónsson jr1,4
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Bæklunarskurðdeild Landspítalans, 3Myndgreiningardeild Landspítalans, 4Heilbrigðisverkfræðideild Háskólans í Reykjavík
Inngangur
Brjóst- og lendarhryggurinn heldur okkur uppi, ver mænu og taugar og leyfr hreyfngu. Við háorkuóhöpp, s.s. bílslys, geta orðið áverkar sem valda varanlegum afeiðingum og skerðingu á lífsgæðum.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði brjóst- og lendarhryggsbrota á Landspítala eftir háorkuáverka eingöngu og skoða sérstaklega meðferð og afdrif óhappsins með tilliti til mismunandi áverkakerfa.
Aðferðir
Sjúkragögn voru yfrfarin m.t.t. aldurs, kyns, þjóðernis, legutíma, orsaka, viðbótaráverka, meðferðar, taugaskaða, árstíma og staðsetningu áverka. Myndrannsóknir voru yfrfarnar til staðfestingar á greiningu brots og þau fokkuð eftir AO áverkakerf.
Niðurstöður
Alls greindust 424 einstaklingar með 596 brot. Að meðaltali voru 21,2 slys á ári, meðalaldur var 40,3 ár, karlar 62,3%. Almenn bílslys voru orsök í 20,5% tilvika, bílveltur í 20,0% og af bílveltum voru 31,4% erlendir einstaklingar. Konur hlutu oftar brot af völdum almennra bílslysa og hestaslysa. Flest brot urðu á L1 (19,1% allra brota) og Th12 (11,2% allra brota). A1 var algengasti brotakóðinn. Th12, L1 og Th7 voru öll með yfr 20% taugaskaða. Aðgerðir voru algengastar meðal B1 brota. Alls fóru 35,8% í aðgerð, 16,5% fékk ytri stuðning og 46,9% eingöngu verkjalyf. Aðrir áverkar voru í 63,2% tilvika og 0,7% létust.
Ályktanir
Tvö brjóst- og lendarhryggsbrot komu mánaðarlega á Landspítalann. Dæmigert var brot á Th12 og L1 hjá 40 ára karlmanni og fóru 83,3% þeirra með B1 brot í aðgerð, með eða án taugaeinkenna. Þeir sem voru án taugaeinkenna höfðu marktækt styttri legutíma. AO áverkafokkun er góð leið til að meta alvarleika brots en ekki til að ákveða nauðsyn skurðaðgerðar.
Nærendabrot á sköflungsbeini á Landspítala 1998-2003
Hlynur Breki Harðarson1
Halldór Jónsson jr14
Auður Sigbergsdóttir3
Þorvaldur Ingvarsson1,2 Þorkell Snæbjörnsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Bæklungarskurðdeild Landspítala, Reykjavík, Íslands
3Myndgreiningardeild Landspítala, Reykjavík, Íslands
4Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Ekki hefur áður verið gerð rannsókn á háorku nærendabrotum á sköfungsbeini á Íslandi.
Markmið
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna faraldsfræði nærendabrota á sköfungsbeini á Landspítala eftir háorkuáverka.
Aðferðir Í þessari rannsókn voru skoðuð sjúkraskrárgögn einstaklinga sem hlutu brot á nærenda sköfungsbeins og leituðu á Landspítala á tímabilinu 1998-2022. Aldur, kyn, áverkaorsök, meðferðaráætlun, legutími og afdrif sjúklinga voru skráð. Flokkun brota byggðist á skoðun og staðfestingu myndrannsókna í Agfa kerfnu og notast var við Schatzker fokkunarkerfð.
Niðurstöður Alls greindust 195 háorkubrot á nærenda sköfungsbeinsins á rannsóknartímabilinu. Meðalaldur sjúklinga var 42,4 ár og 62.1% þátttakenda voru karlar. Umferðarslys voru algengasta orsök brota, en einnig voru hestaslys og frístundaslys algeng. Flest brot áttu sér stað í júní og tíðni slysa var hærri yfr sumarmánuðina. Algengasti brotafokkurinn var Schatzker fokkur II (32.8%).
Aðgerð var framkvæmd í 56.9% tilvika, þar sem innri festing með plötu og skrúfum var algengasta tegund aðgerðar (74.8% allra aðgerða). Meðal þeirra sem fóru í aðgerð reyndust Schatzker VI brot algengust. Viðbótaráverkar greindust í 31.2% tilvika, oftast hjá einstaklingum með fókin brot í fokki VI. Aðeins eitt andlát átti sér stað í tengslum við brotin (0.5%). Algengar aukaverkanir voru sýkingar og blóðtappar en tíðni þeirra var lág.
Ályktanir
Þróun nýgengis hjá þessum brotum á Íslandi (1998-2022) fer vaxandi sem er sambærilegt þróun í nágrannalöndum okkar. Áverkarnir eru algengari hjá körlum og eiga sér frekar stað hjá yngri einstaklingum. Umferðarslys voru algengasta orsökin en hestaslys voru næst á eftir þeim.
Meirihluti sjúklinga fór í aðgerð vegna áverka á nærenda sköfungsbeinsins.
Duldir berklar á Landspítala – meðferð, árangur og aukaverkanir
Hrannar Ása Magnúsar1
Brynja Ármannsdóttir1,3
Birgir Jóhannsson2
Agnar Bjarnason1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Smitsjúkdómalækningar Landspítala, Reykjavík, Ísland
3Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Einstaklingur getur verið smitaður af berklum án þess að sýkingin sé virk og er þá einkennalaus og kallast það duldir berklar. Duldir berklar eru oftast greindir með húðprófum en nákvæmari Quantiferonblóðpróf eru nú meira notuð. Notast hefur verið við tvær mismundi lyfameðferðir: rifampicin í 4 mánuði eða isoniazid í 6-9 mánuði.
Markmið
Að kanna földa þeirra sem greinast með dulda berkla á Landspítalanum með Quantiferonpróf á rannsóknartímabilinu. Einnig að skoða hlutfall þeirra sem fá meðferð, hvaða meðferð er veitt, árangur þeirra og aukaverkanir.
Aðferðir
Jákvæð Quantiferon próf frá 2007-2023 voru sótt í Cyberlab-kerf Landspítalans og viðbótargögn sótt í rafræn sjúkraskrárkerf Landspítalans. Notast var við R Studio til að hreinsa gögnin og fokka í undirhópa. Tíðni aukaverkanna og brottfall úr meðferð var borin saman milli meðferðarhópa.
Niðurstöður Alls voru 311 einstaklingar með jákvætt Quantiferon-próf. Fjöldi Quantiferon-prófa hefur vaxið með veldisvexti síðan 2007, að jafnaði var hlutfall jákvæðra prófa 10,1%. Af 261 fullorðnum fengu 92 (35,3%) meðferð Af þeim voru 50 (54,3%) sem luku meðferð eða fengu fullan lyfaskammt afentan. Ekki var marktækur munur á aukaverkunum milli einstaklinga sem fengu rifampicin miðað við þá sem fengu isoniazid (P-gildi=0,962). Hins vegar var marktækur munur milli lyfa hvort meðferð var lokið miðað við aðra mögulegar niðurstöður (P-gildi=0,003).
Ályktanir
Notkun Quantiferon prófa hefur aukist. Hlutfall þeirra sem ekki fá meðferð er stórt og margir ljúka henni ekki. Fleiri ljúka rifampicin meðferð en aukaverkanir voru svipaðar. Eftirfylgni hefur batnað á tímabilinu og meðferð styst sem getur skýrt þennan mun.
Ingvar Gíslason1
Bjarni Sigurðsson2
Adam Erik Bauer3
1Faculty of Medicine, University of Iceland, Reykjavík, Iceland
2Department of Pharmacology, University of Iceland, Reykjavík, Iceland
3Research Laboratory of Pharmaceutical and Toxicological Chemistry, University of Iceland, Reykjavík, Iceland
Introduction
The rising public health burden of opioid misuse demands novel surveillance approaches that capture both prescribed and non-medical consumption.
Objectives
This study evaluates wastewater-based epidemiology (WBE) as a complementary tool to prescription monitoring by investigating whether community-level opioid loads in Icelandic wastewater correlate with national dispensing trends.
Methods
Over a 12-month period in 2024, sixty-nine 24-hour composite samples were collected – one per day during ten separate one-week sampling periods. Samples were analyzed via UPLC- MS/MS, targeting fve opioids (morphine, codeine, oxycodone, tramadol, and fentanyl), with internal standards to correct for matrix effects. Weekly concentrations were compared to corresponding prescription counts using Spearman’s rank correlation. Two additional temporal analyses were conducted: up to three-month lag comparisons at the monthly level and up to four-week lag comparisons at the weekly level.
Results
Of the fve opioids, only morphine showed a statistically signifcant association with weekly prescription data (ρ = 0.65, p = 0.049). In the one-month-lagged monthly analysis, tramadol exhibited a stronger correlation (ρ = 0.767, p = 0.021). Oxycodone showed a moderate but non-signifcant correlation with a two-week lag (ρ = 0.60, p = 0.097). Codeine and fentanyl correlations were non-signifcant (p > 0.05).
Conclusions
These fndings suggest that morphine is the most reliable WBE marker for tracking weekly prescription trends, while tramadol may serve as a useful monthly predictor. The moderate oxycodone signal suggesting potential predictive value and highlights the need to investigate optimal lag times, sampling frequencies and the potential impact of unrecorded consumption. Future work should enhance temporal resolution and incorporate additional data sources to support real-time opioid surveillance and early intervention.
Isabella María Eriksdóttir1
Freyja Jónsdóttir1,3
Martin Ingi Sigurðsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands
2Svæfnga- og gjörgæsludeild Landspítala
3Lyfaþjónusta Landspítala
Inngangur Öldruðum sjúklingum er oft ávísað geðrofslyfum sem meðferð við óráði og heilabilun. Lyfn eru oft hluti af föllyfameðferð og hefur áhættu á aukaverkunum. Mögulegt er að hluti sjúklinga verði nýir notendur eftir innlögn á sjúkrahús og að hluti þeirra verði langvinnir notendur.
Markmið Kanna faraldsfræði nýrrar og nýrrar langvarandi geðrofslyfanotkunar í kjölfar innlagnar á lyfækningasvið Landspítalans og bera saman sjúklinga- og legutengda þætti sem tengjast henni.
Aðferðir Afturskyggn ferilrannsókn sem nýtir íslenska lyfækningagagnagrunninum sem inniheldur upplýsingar um innlagnir á lyfækningasvið 2010-2020. Sjúklingum var skipt í hópa miðað við útleysimynstur geðrofslyfa í tengslum við innlögnina: krónískur notandi, nýr ekki langvinnur notandi, nýr langvinnur notandi og sjúklingar með enga notkun.
Nýgengi nýrrar og nýrrar langvinnrar geðrofslyfanotkunar var reiknuð og notuð ein- og fölbreytugreining til að meta tengsl mismunandi þátta við nýja og nýja langvinna notkun geðrofslyfa.
Niðurstöður Af 75.484 innlögnum voru 14,0% krónískir notendur geðrofslyfa. Af þeim 64.906 sem voru ekki krónískir notendur fyrir innlögn hófu 3,4% nýja notkun. 57,1% nýrra notenda hófu nýja langvinna notkun . Nýgengi nýrra langvinnra notenda hækkaði um 0,34% árin 2010-2020. Sjúklingar sem lögðust inn á innkirtla-, öldrunar-, nýrna-, lungna-, endurhæfngar- og gigtarlækningadeildir voru í aukinni hættu á nýrri langvinnri notkun geðrofslyfa í kjölfar innlagnar.
Ályktanir Þróun geðrofslyfanotkunar getur endurspeglað minni notkunar benzódíazepíns eða aukna þörf vegna heilabilunar og óráðs við öldrun þjóðar. Mikilvægt er að vinna að leiðum til að rýna lyf og ábendingar þeirra við útskrift af sjúkrahúsi og yfrfærslu þjónustu til heilsugæslu til að draga úr líkum á langvinnri notkun.
Greiningarhæfni og forspárgildi mismunandi mæliaðferða á fríum léttum keðjum í sermi
Jóhanna Vigdís Guðjónsdóttir1
Sæmundur Rögnvaldsson11,3
Lærke Sloth Anderssen2
Sigrún Þorsteinsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Ríkisspítalinn, Kaupmannahöfn, Danmörk 3Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Fríar léttar keðjur í sermi eru mikilvægur lífefnavísir þegar það kemur að greiningu og eftirfylgni plasmafrumusjúkdóma á borði við MGUS og Multiple Myeloma. Mismunandi mæliaðferðir eru í notkun til að mæla þessar fríju keðjur, en þekking á samanburði þeirra er takmörkuð
Markmið
Að meta nákvæmni greiningar og spágildi mismunandi mæliaðferða frírra léttra keðja í sermi hjá sjúklingum með MGUS. Einnig að meta samræmi milli niðurstaðna úr mismunandi mæliaðferðum til að kanna hvort megi yfrfæra niðurstöður rannsókna á báðar aðferðir.
Aðferðir
Samanburður var gerður á mælingum með tveimur aðferðum: Freelite og N-Latex FLC greiningarprófum. Gögnin voru fengin úr
DALY-CARE gagnagrunni sem inniheldur upplýsingar um alla danska fullorðna einstaklinga sem greindir hafa verið með eitilfrumukrabbamein frá 1. janúar 2002 til 16. nóvember 2024 (n=65.774). Samanburður á niðurstöðum greiningarhæfna var gerður með framkvæmd cumulative incidence grafs og cox plot notað til að reikna áhættuglutfall og p-gildi.
Niðurstöður
Alls voru 1.929 einstaklingar mældir með
N-Latex aðferðinni og 7,678 með Freelite aðferðinni. Þróun í mergæxli var algengari hjá þeim sem höfðu óeðlilegt FLC hlutfall (7,8% N-Latex, 7,0% Freelite) miðað við þá með eðlilegt hlutfall (2,8%, 2,1%). Eftir 10 ára eftirfylgni var hlutfall illkynja þróunar um 18% hjá þeim sem höfðu afrigðilega FLC mælingu hjá Freelite, en 16% hjá N-Latex.
Ályktanir
Báðar mæliaðferðir sýna góða greiningarhæfni fyrir MGUS. Freelite mælingar hafa hærra spágildi og meiri sértækni. Þrátt fyrir það sýna báðar aðferðir fram á gott næmni þegar það kemur að mælingum og því er hægt að draga þá ályktun að báðar aðferðir eru nægilegar til greiningar.
Áhrif þyngdarstjórnunarlyfja
(GLP-1 hliðstæðna) á þunglyndi og kvíða
Jóhannes Helgason Thoroddsen1
Unnur Anna Valdimarsdóttir,1
Helga Zoega,1
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir1
Hjalti Gunnlaugur Skúlason1 Thor Aspelund1
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
Inngangur
GLP-1 hliðstæður hafa á undanförnum árum gjörbreytt meðferð við offtu og sykursýki 2. Áhrif þessara lyfa á andlega líðan eru enn óljós.
Markmið
Að kanna mögulegar breytingar á einkennum þunglyndis og kvíða meðal þeirra sem notuðu GLP-1 hliðstæður á fmm ára tímabili.
Aðferðir
Rannsóknin byggir á gögnum úr Áfallasögu kvenna á 14.731 konum sem svöruðu tveimur spurningalistum, fyrst á árunum 2018-2019 (þá 18-69 ára) og síðan árið 2024 þar sem þær svöruðu spurningum um notkun GLP-1 hliðstæðna og tímalengd notkunar. Notuð voru línuleg líkön til að bera saman breytingar á einkennum þunglyndis (PHQ-9) og kvíða (GAD-7) eftir notkun á GLP-1 hliðstæðum.
Niðurstöður
Alls höfðu 1.797 konur (12,2%) notað GLP-1 hliðstæður á rannsóknartímabilinu en BMI þeirra lækkaði marktækt á rannsóknartímabilinu (úr 34,6 í 32,6; p < 0,0001) en jókst meðal kvenna sem ekki notuðu lyfn (úr 27,3 í 27,6; p < 0,0001).
Meðaltalsgildi einkenna þunglyndis og kvíða hækkuðu meðal kvenna sem ekki notuðu lyfn en lækkuðu lítillega meðal notenda, en munurinn var ekki tölfræðilega marktækur (þunglyndi: 9,9 í 9,7; p = 0,12; kvíði: 7,6 í 7,5; p = 0,9). Notendur lyfanna sem upplifðu 5-15% þyngdartap á rannsóknartímabilinu voru með tölfræðilega marktækt lægri einkenni þunglyndis (úr 9,68 í 8,69; p< 0,0001) undir lok samanborið við upphaf rannsóknartímabils.
Ályktanir
Fyrstu niðurstöður benda til þess að notkun þyngdarstjórnunarlyfa tengist lækkuðum líkamsþyngdarstuðli á fmm ára tímabili en einungis marktækum geðhag meðal kvenna sem ná miklu þyngdartapi í meðferð
Árangur barkaþræðinga með fingrum og löngum leiðara samanborið við myndbarkakýlissjá
Jóhann Styrmir Jónsson1
Bjarni Dagur Þórðarson1
Hjalti Már Björnsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Barkaþræðing er inngrip sem er oft framkvæmt í bráðum aðstæðum til þess að tryggja öndunarveg. Við bráðar barkaþræðingar er staðalaðferð að notast við myndbarkakýlissjá (Video LaryngoscopyVL). Ef barkakýlissjá er ekki tiltæk er hægt að nota fngur til þess að koma barkarennu á réttan stað (Digital Intubation – DI). Algengt er að nota langan leiðara sem hjálpartæki við DI.
Markmið
Að bera saman árangur og lærdómskúrfu VL og DI í höndum læknanema án fyrri þjálfunar í bráðri öndunarvegameðferð
Aðferðir Læknanemar í BS námi án reynslu í bráðri öndunarvegameðferð fengu staðlaða stutta þjálfun í barkaþræðingu með VL og DI með löngum leiðara, á sjúklingabrúðu í hermisetri. Eftir þjálfun voru þáttakendur látin barkaþræða 10 sinnum með hvorri aðferð í handahófskenndri röð. Skráð var hvort tilraun heppnaðist, hve langan tíma hún tók, hvort óhófegt álag haf verið á tennur og orsök misheppnaðra tilrauna.
Niðurstöður 27 nemendur framkvæmdu samtals 540 barkaþræðingar, 270 með hvorri aðferð Ekki var munur á árangri eftir hvaða aðferð var notuð, 93,7% barkaþræðinga með VL heppnuðust og 95,6% með DI. Meðaltími til barkaþræðingar tók styttri tíma með VL en með DI, 43,6 sekúndur með VL og 59,5 með DI . Tíðni óhófegs álags á tennur var algengara með VL og ekki var munur á tíðni barkaþræðinga í vélinda.
Ályktanir
Við barkaþræðingu læknanema með lágmarksþjálfun í öndunarvegameðferð var ekki marktækur munur á því að nota VL eða DI. Þar sem VL eða annar sérhæfður búnaður er ekki alltaf tiltækur þegar barkaþræðingar er þörf er mögulega gagnlegt að þjálfa verðandi lækna í DI.
Greining, meðferð og horfur sjúklinga með bandvefskímæxli í meltingarvegi (GIST) á árunum 2015-2024
Jóna Björk Einarsdóttir1
Kristín Huld Haraldsdóttir1,2
Bjarni Geir Viðarsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands
2Kviðarholsskurðdeild Landspítali Háskólasjúkrahús
Inngangur
Bandvefskímæxli í meltingarvegi (e. gastrointestinal stromal tumor, GIST) eru sjaldgæf æxli sem talin eru myndast frá gangráðsfrumum meltingarvegarins. Algengast er að æxlin séu einkennalaus, góðkynja, vel afmörkuð og skurðtæk en í allt að þriðjungi tilfella verða þau illkynja. Meðferð ræðst af áhættumati sem byggir á staðsetningu, stærð og földa frumuskiptinga. Við hááhættuæxli eða meinvörp er krabbameinslyfameðferð gjarnan beitt.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar var að kanna algengi GIST æxla á Íslandi á tímabilinu 2015-2024, staðsetningu þeirra, tíðni og tegund skurðaðgerða, endurkomu og lifun.
Aðferðir
Framkvæmd var afturskyggn rannsókn á einstaklingum sem greindust með GIST á tímabilinu 1. janúar 2015 til 31. desember 2024. Gögn voru fengin frá Krabbameinsskrá Íslands og sjúkraskrárkerfum Landspítala og greind með lýsandi og ályktunartölfræði.
Niðurstöður Alls greindust 72 einstaklingar með GIST á rannsóknartímabilinu. Meðalaldur við greiningu var 63 ár og 72,2% sjúklinga voru í yfrþyngd eða í sjúklegri ofþyngd. GIST greindist í 65,3% tilfella í kjölfar einkenna en í 34,7% tilfella fyrir tilviljun, þar af 12,5% við efnaskiptaaðgerðir. Æxli voru oftast staðsett í maga (70,8%) og meinvörp voru til staðar við greiningu í 11,1% tilfella. Aðgerðarhópur samanstóð af 54 sjúklingum og alls fengu 15 lyfameðferð í tengslum við aðgerð. Endurkoma greindist hjá 4 sjúklingum og reyndist marktækur munur á tíðni endurkomu eftir áhættufokkun (p<0.05). Hlutfallsleg eins og fmm ára lifun var 92,9% og 73,3%.
Umræður
Nýgengi GIST á Íslandi reyndist í samræmi við það sem þekkist á heimsvísu. Hátt hlutfall tilviljanagreininga bendir til mögulegs vanmats á algengi. Meðalaldur, staðsetning æxla, tíðni meinvarpa og endurkoma voru í samræmi við erlendar rannsóknir.
Algengi Helicobacter pylori hjá fullorðnum einstaklingum á Íslandi
Jón Bjartur Þorsteinsson1
Sigurður Yngvi Kristinsson1
Einar Stefán Björnsson1
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Sýking af völdum Helicobacter Pylori (H. pylori) er á heimsvísu ein algengasta orsök langvarandi magabólgu, maga- og skeifugarnarsára og er áhættuþáttur magakrabbameins. Á Íslandi hefur algengi H. pylori sýkinga farið lækkandi síðustu áratugina samfara auknu hreinlæti, minni þröngbýli og bættum lífskjörum. Síðustu tölur um algengi H. Pylori á Íslandi frá 2001, sýndi 36% algengi hjá yngri en 50 ára.. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum er mælt með skimun og meðhöndlun H. pylori hjá yngri sjúklingum (<45–55 ára) með efri kviðverki/kviðaróonot (e. dyspepsia), að því tilskildu að staðbundið algengi H. pylori sýkinga sé >20%.
Markmið Að meta algengi H. pylori sýkingar í lýðgrunduðu þýði hjá ýmsum aldurshópum á Íslandi.
Aðferðir IgG-mótefni úr 497 einstaklingum, safnað á tímabilinu 2018-2024 í rannsókninni Blóðskimun til bjargar og tilheyrðu einstaklingum á aldrinum 44-65 ára sem greindust með MGUS (e. monoclonal gammopathy of undetermined signifcance), voru greind með Elísu-próf á Sýkladeild Landspítalans.
Niðurstöður
Af 485 mælingum voru 150 (30,9%) með mótefni gegn H. Pylori en nokkrir voru með vafasvör, 12/497 (2,4%) með jákvæð en lág mótefni. Algengi mótefna gegn H. pylori hækkaði marktækt með aldri (p = 0.0005). Alls voru 24,9% (n=165) hjá 44-56 ára, en 28,8% (n=160) hjá 57-61 ára og 39,4% (n=160) hjá 62-65 ára.
Ályktanir
Algengi H. pylori sýkingar er enn hátt á meðal slembivöldu þýði á Íslandi. Algengið fór hækkandi með hækkandi aldri. Ástæða er til þess að skima fyrir og meðhöndla H. Pylori sýkingu hjá sjúklingum með kviðverki og/eða efri kviðarónot.
Millivefslungnasjúkdómar á gjörgæsludeildum Landspítala 2019-2023
Karen Hilma Jónsdóttir1
Arnar Ágústsson2
Gunnar Guðmundsson1,3
Martin Ingi Sigurðsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands
2Svæfnga- og gjörgæsludeild Landspítala
3Lungnadeild Landspítala
Inngangur
Millivefslungnasjúkdómar er samheiti yfr 200 herpusjúkdóma sem eiga það sameiginlegt að geta valdið bólgu, bandvefsmyndun eða hvoru tveggja. Skemmdirnar leiða til minnkaðrar lungnagetu og loftskipta og bráðar versnanir geta verið mjög alvarlegar.
Markmið
Að kanna meðferð og horfur einstaklinga með bráða versnun á ILD sem þarfnast gjörgæslumeðferðar á Íslandi á tímabilinu 2019-2023.
Aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn byggð á gögnum allra sjúklinga sem lögðust inn á gjörgæsludeild Landspítala vegna öndunarbilunar og höfðu jafnframt skráða greiningu á millivefslungnasjúkdóm (J84) milli 2019-2023.
Niðurstöður
Alls voru 33 innlagnir í rannsókninni hjá 26 sjúklingum. Kynjahlutfall var jafnt og miðgildi aldurs 66 ár. Innlögn á gjörgæslu var í 69,7% tilfella innan tveggja ára frá greiningu ILD. Sjúklingar með skráða J84.1 (Other interstitial pulmonary diseases with fbrosis) greiningu höfðu verstu lifunina. Meðferð ILD fyrir innlögn á gjörgæslu var í 36,4% tilfella sterar. Miðgildi APACHE II var 21. Þeir 24 sem fengu innri öndunarvélastuðning höfðu betri lifun en þeir sem ekki fengu. Miðgildi daga í öndunarvél var 5 og gjörgæslulegu var 6. Alls létust 11 (33,3%) í legunni og var dánarorsök í öllum tilfellum öndunarbilun. Meðferðartakmarkanir við gjörgæsluinnlögn voru engar hjá 90,9% en 57,6% við útskrift.
Ályktanir
ILD er alvarlegur sjúkdómur og versnanir alvarlegar. Dánartíðni sjúklinga með ILD sem þörfnuðust gjörgæslumeðferðar var 33,3%, sem er lægra en erlendar rannsóknir hafa sýnt. Niðurstöður erlendra rannsókna sýna fram á að IPF haf verstu lifun ILD sjúkdóma, sem samræmist okkar niðurstöðum. Niðurstöður erlendis sýna verri lifun þeirra sem hljóta innri öndunarvélastuðning sem ekki samræmist niðurstöðum þessarar rannsóknar.
Réttarmeinafræði banvænna eitrana á Íslandi
Katla Sigríður Gísladóttir1
Pétur Guðmann Guðmannsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Meinafræðideild Landspítala, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Banvænar eitranir eru algengt viðfangsefni réttarlækna. Við lok réttarkrufningar þarf að ákvarða dánaratvik, sem geta verið slys, sjálfsvíg, manndráp eða óviss dánaratvik. Vert er að rannasaka hvort réttarmeinafræðilegar breytur, sem koma fram í krufningu, geti varpað frekara ljósi á greiningu dánaratvika.
Markmið
Að kanna hvort munur sé á réttarmeinafræðilegum þáttum í banvænum eitrunum með ólík dánaratvik.
Aðferðir
Gögn um banvæn eitrunartilfelli voru sótt úr SymPathy – RMed, gagnagrunni meinafræðideildar Landspítalans. Safnað var upplýsingum um valdar réttarmeinafræðilegar breytur ásamt niðurstöðum úr réttarefnafræðilegum rannsóknum. Notast var við kí- kvaðratpróf og t-test við samanburð breyta. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi < 0,05.
Niðurstöður Af þeim réttarkrufningum sem uppfylltu rannsóknarskilyrði (N=362) voru slys algengustu dánaratvikin (50,6%), þar á eftir komu óviss dánaratvik (26,5%) og sjálfsvíg (22,9%). Tíðni manndrápa voru engin (N=0). Marktækur munur var á dánaratvikum karla og kvenna (p<0,001). Slys voru marktækt algengustu dánaratvik meðal karla (59,5%; p<0,001) en ekki reyndist marktækur munur á dreifngu dánaratvikum kvenna (p = 0,8559) Ásvelging á magainnihaldi sást frekar í slysum samanborið við sjálfsvíg (p=0,145), stunguför voru algengari í slysum samanborið við sjálfsvíg (p<0,001) og lyfaleifar í meltingarvegi voru frekar til staðar í sjálfsvígum samanborið við slys (p<0,001). Ekki reyndist marktækur munur á öðrum réttarmeinafræðilegum breytum milli dánaratvika.
Ályktanir
Rannsóknin felur í sér nýja nálgun á hvernig litið er á eitranir í tengslum við dánaratvik. Stunguför og ásvelging á magainnihaldi reyndust algengari í slysum, en lyfaleifar voru algengari í sjálfsvígum. Þótt greining dánaratvika sé enn fókin gætu niðurstöður bent til þess að slys tengjast lengra dánarferli.
Samanburður svefnmælinga úr snjallúrum, svefndagbókum og svefnmælitækjum hjá einstaklingum með svefnleysi og heilbrigðum
Katrín María Ólafsdóttir1
Konstantin Popov2
Erna Sif Arnardóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Háskólinn í Reykjavík, Reykjavík, Ísland
Inngangur Svefnleysi hefur áhrif á bæði huglæga og hlutlæga mælingu svefns. Notkun snjallúra til svefnmælinga hefur aukist mikið, en áreiðanleiki þeirra í samanburði við klínísk viðmið er enn óljós.
Markmið
Að bera saman svefngögn úr snjallúrum, svefndagbókum og svefnmælitækjum, hjá einstaklingum með svefnleysi og heilbrigðum viðmiðum.
Aðferðir Þátttakendur mældu svefn sinn eina nótt heima með svefnmælitæki, Withings snjallúri og fylltu út rafræna svefndagbók. Þátttakendum var skipt í tvo hópa eftir Insomnia Severity Index (ISI): heilbrigða (ISI < 15) og með svefnleysi (ISI ≥ 15). Vegna skekkju í gögnum voru notuð stikalaus tölfræðipróf, þ.á.m. Wilcoxon-próf. Stuðlar innri fylgni (ICC) voru reiknaðir til að meta samræmi milli mæliaðferða.
Niðurstöður Fjörutíu þátttakendur voru í rannsókninni (55% konur), þar af 22 heilbrigðir og 18 með svefnleysi. Samræmi milli mæliaðferða var almennt lítið, en hæsta samræmið (ICC) fannst fyrir heildarsvefntíma milli PSG og svefndagbókar (ICC = 0.393, p = 0.005). Samræmi fyrir sofnunartíma, svefnnýtingu og vöku eftir svefnbyrjun var ómarktækt. Einstaklingar með svefnleysi mátu svefn sinn styttri og sváfu styttra en heilbrigðir (svefndagbók p = 0.037, PSG p = 0.043), en ekki fannst marktækur munur á heildarsvefntíma með snjallúri.
Ályktanir
Snjallúr sýndu takmarkaða nákvæmni í mælingum á heildarsvefntíma í samanburði við PSG, en svefndagbækur sýndu meira samræmi. Snjallúr ofmeta heildarsvefntíma kerfsbundið, sérstaklega hjá einstaklingum með svefnleysi. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að sannreyna áreiðanleika snjallúra til svefnmælinga og staðfestir gildi huglægs mats á svefni.
Áhrif metformins á lifun einstaklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein
Katrín Ósk Arnarsdóttir
Arnar Snær Ágústsson1,2
Sigurdís Haraldsdóttir1,2
Einar Stefán Björnsson1,2
1Landspítali, Reykjavík, Ísland
2Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Ristil- og endaþarmskrabbamein er þriðja algengasta krabbamein á heimsvísu og önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina. Kenningar hafa verið um að metformin, sem er fyrsta meðferðarval við sykursýki 2, kunni að hafa verndandi áhrif gegn slíkum krabbameinum í gegnum vissar innanfrumuboðleiðir.
Markmið
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif metformins á stigun, tíðni endurkomu og lifun sjúklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein.
Aðferðir
Rannsóknin var afturskyggð og tók til allra sjúklinga sem greindust með ristilog endaþarmskrabbamein á Íslandi á árunum 2003-2019. Gögn voru fengin frá Krabbameinsskrá, lyfagagnagrunni Landlæknis, dánarmeinaskrá og sjúkraskrám. Sjúklingar sem höfðu tekið metformin fyrir greiningu voru bornir saman við þá sem ekki tóku lyfð meðal annars hvað varðar TNMstigun, heildarlifun og endurkomu æxlis.
Niðurstöður Af 2388 sjúklingum sem greindust með ristil- og endaþarmskrabbamein á rannsóknartímabilinu höfðu 213 tekið metformin fyrir greiningu. Þeir sem tóku metformin voru að jafnaði eldri og með meiri undirliggjandi sjúkdómsbyrði samkvæmt Charlson Comorbidity Index. Ekki var marktækur munur á TNM-stigun né tíðni endurkomu æxlis milli hópanna. Heildarlifun á eftirfylgnitímabilinu var 38% í metforminhópnum en 46% í samanburðarhópnum. Krabbameinssértæk lifun var 66% í metforminhópnum og 67% í samanburðarhópnum. Þegar metforminhópnum var skipt frekar niður eftir magni eða lengd notkunar lyfsins fyrir greiningu fannst enginn marktækur munur á stigun, endurkomu, heildarlifun né krabbameinssértækri lifun milli undirhópanna. Ályktanir
Niðurstöður rannsóknarinnar benda ekki til þess að metformin haf bein verndandi áhrif gegn ristil- og endaþarmskrabbameinum né bæti horfur. Mikið ósamræmi í fyrri rannsóknum undirstrikar mikilvægi frekari rannsókna til að greina betur möguleg áhrif lyfsin
Greining og einkenni
fitubjúgs hjá konum á Heilsubrú HH
Kolbrún Sara Haraldsdóttir1
Hildur Skúladóttir3,4
Erla Gerður Sveinsdóttir2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Heilsubrú Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins, Reykjavík, Ísland
3Haraldsplass Diakonale sykehus, Bergen, Noregur
4University of Bergen, Bergen, Noregur
Inngangur
Fitubjúgur er langvinnur sjúkdómur sem einkennist af óhlutfallslegri ftusöfnun í fótleggjum og stundum handleggjum kvenna, ásamt verkjum í umræddum ftuvef. Sjúkdómurinn hefur hingað til ekki verið formlega rannsakaður á Íslandi.
Markmið
Að kanna greiningu og einkenni ftubjúgs meðal kvenna sem sóttu einstaklingsviðtal hjá Heilsubrú HH vegna gruns um sjúkdóminn.
Aðferðir
Rannsóknin er aftursýn lýsandi gagnarannsókn. Alls sóttu 631 kona fræðslu um ftubjúg hjá Heilsubrú HH frá nóvember 2022 til maí 2024, en 190 þeirra fóru í einstaklingsviðtal og mynda rannsóknarþýðið Gögn voru fengin úr spurningalistum, hjúkrunarnótum og líkamsmælingu með
Tanita MC-780. Skráð var saga og einkenni ftubjúgs, mælingar á líkamssamsetningu, lýðfræðilegar breytur, viðeigandi sjúkrasaga og heilsuvenjur.
Niðurstöður Alls voru 182 konur greindar með ftubjúg. Meðalaldur við greiningu var 48,0 ár og 76,4% höfðu búsetu á höfuðborgarsvæðinu. Af heildarfölda höfðu 13,7% áður fengið greiningu. Fyrstu einkenni komu oftast fram á unglingsaldri (12-18 ára; 41,2%) eða sem ungar konur (19-45 ára; 33,5%). Algengustu staðsetningar fyrstu einkenna voru læri (83,5%) og kálfar (55,5%). Ættarsaga um sjúkdóminn eða svipaða ftudreifngu kom fram hjá 74,2% kvenna og 40,7% nefndu að móðir hefði slíka sögu. 83,5% kvenna greindu frá mjög miklum eða frekar miklum eymslum við litla snertingu á ftuvef. Þá sögðu 66,5% að verkir vegna ftubjúgs hindruðu þær í hreyfngu að einhverju leyti. Um 80,2% höfðu aldrei fengið meðferð við ftubjúg. Meðaltal líkamsþyngdarstuðuls (BMI) mældist 33,9 kg/m².
Ályktanir Þrátt fyrir einkenni frá unga aldri höfðu festar konur greinst seint og fáar fengið meðferð, sem undirstrikar þörf fyrir bættum greiningarleiðum og fræðslu um ftubjúg á Íslandi.
SSRI/SNRI meðferð á meðgöngu og áhrif á nýbura
Kolka Magnúsdóttir1
Sonja Baldursdóttir2,3 Þórður Þórarinn Þórðarson2,3,4
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Barnaspítali Hringsins, Landspítala, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Síðastliðinn áratug hefur notkun þunglyndislyfa hérlendis aukist hratt. Skortur er á rannsóknum um áhrif þessara lyfa í móðurkviði. Í ljósi mikillar notkunar er mikilvægt að meta áhrif meðferðar á fóstur og nýfætt barn.
Markmið Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna algengi notkunar SSRI/SNRI lyfa við fæðingu, hver tíðni aðhlynningar/endurlífgunar væri, hvort tengsl séu við aukna tíðni innlagna/ eftirlits á Vökudeild og hvaða einkenni megi álykta að séu tengd notkun þessara lyfa á meðgöngu.
Aðferðir
Gerð var afturskyggn samanburðarrannsókn sem náði til allra barna sem fæddust á Landspítala árið 2023, samtals 3200 nýburar. Úrtakshópurinn samanstóð af börnum mæðra á SSRI/SNRI lyfum við fæðingu og viðmiðunarhópurinn öll önnur börn í rannsóknarþýði. Að auki voru þau börn sem lögðust inn á Vökudeild skoðuð nánar.
Niðurstöður
Börm mæðra á SSRI/SNRI meðferð voru samtals 336, eða 10,9% allra barna í þýðinu. Marktækur munur var á tíðni aðhlynningar eftir hópum, 29.2% í SSRI/SNRI hópi en 14.6% í viðmiðunarhópi. Það sama átti við um tíðni innlagna/eftirlits á Vökudeild sem var 19.35% í hópi SSRI/SNRI en 12.98% í viðmiðunarhópi. Af öðrum breytum reyndist marktækur munur á Apgar-stigun, tíðni öndunarerfleika í sængurlegu og tíðni uppvinnslu mtt sýkinga, hærri í SSRI/SNRI hópi.
Ályktanir
Börn mæðra á SSRI/SNRI meðferð þurfa frekar á aðhlynningu að halda í kjölfar fæðingar, á það við um súrefnisgjöf og hvers kyns öndunaraðstoð. Eins benda niðurstöður á tengsl við aukna þörf nýbura á aðkomu Vökudeildar. Að auki eiga þau í aukinni hættu á að glíma við öndunarerfðleika í sængurlegu, lægri Apgar-stigun við fæðingu ásamt því að tíðni uppvinnslu mtt sýkinga er hærri.
Langtímaárangur
kransæðahjáveituaðgerða á sláandi hjarta
Kristjana Lind Ólafsdóttir1
Sigurður Ragnarsson2
Luis Gísli Rabelo1
Tómas Guðbjartsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Kransæðahjáveituaðgerð má bæði framkvæma með aðstoð hjarta- og lungnavélar (HLV) og á sláandi hjarta (SH). Flestar rannsóknir sem hafa borið saman þessar tvær aðferðir hafa beinst að skammtímaárangri.
Markmið
Að bera saman árangur þessara aðgerðartegunda, með áherslu á langtímafylgikvilla, MACCE-fría lifun og heildarlifun.
Aðferðir
Afturskyggn ferilrannsókn á 2337 kransæðahjáveituaðgerðum á Landspítala 2001- 2021. Sjúklingum var skipt í tvo hópa eftir því hvort aðgerðirnar voru framkvæmdar með HLV eða á SH. Eftirfarandi langtímafylgikvillar voru bornir saman milli hópa; heilablóðfall, kransæðastífa, kransæðavíkkun, endur-hjáveituaðgerð og dauði (MACCE). Langtímalifun og MACCE-frí lifun var áætluð í báðum hópum með aðferð Kaplan-Meier.
Niðurstöður Meðalaldur sjúklinga var 66,5 ár og karlar voru 82,7%, sjúklingar í HLV-hópi voru 0,9 árum eldri, höfðu oftar sögu um nýrnabilun, hærra EuroSCORE II og útbreiddari kransæðasjúkdóm. Marktækur munur reyndist á uppsöfnuðu nýgengi kransæðavíkkanna (13,6% í SH-hópi sbr. 9,7% í HLV-hópi, p=0,02) við tíu ára eftirfylgd, en uppsafnað nýgengi kransæðastífna (8%), heilablóðfalls (6%) og endurhjáveituaðgerða (<1%) var sambærilegt. Ekki reyndist munur á MACCEfrírri lifun sem mældist 72% eftir tíu ár. Hins vegar sást verri heildarlifun í HLV-hópi, eða 73,4% samanborið við 78,4% í SH-hópnum (p=0,042). Eftir leiðréttingu á bjagandi breytum var ekki marktækur munur á tíu ára heildarlifun milli hópa (ÁH: 0,81; 95% ÖB: 0,61-1,07; p=0,137).
Ályktanir
Langtímaárangur kransæðahjáveituaðgerða á Íslandi er góður, bæði hvað varðar lifun og langtímafylgikvilla, hvort sem aðgerðin er framkvæmd á SH eða með aðstoð HLV. Í helstu atriðum voru langtímafylgikvillar sambærilegir milli hópa og ekki reyndist munur á lifun eftir aðgerðartegund.
Áhættuþættir fyrir samtímis og síðkomnum æxlum í ristli- og endaþarmi á meðal einstaklinga með ristil- og endaþarmskrabbamein
Kristín Brynja Þorvaldsdóttir1
Arnar Snær Ágústsson2
Sigurdís Haraldsdóttir2
Einar Stefán Björnsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Ristil- og endaþarmskrabbamein eru meðal algengustu krabbameina á heimsvísu og áætlað að um 5% íslendinga muni greinast slíkt mein á lífsleiðinni. Lítill hluti sjúklinga greinast með feiri en eitt æxli, annaðhvort samtímis (e. synchronous) eða seinna á ævinni (e.metachronous). Lítið er vitað um eðli æxla hjá þessum sjúklingum.
Markmið
Að meta áhættuþætti og tíðni samtímis og síðkominna æxla á Íslandi.
Aðferðir
Afturskyggn ferilrannsókn byggð á gögnum frá Krabbameinsskrá Íslands sem tók til allra sjúklinga sem greinst höfðu með ristil- og endaþarmskrabbamein á árunum 2000-2019. Notast var við fyrirliggjandi gögn úr fyrri rannsóknum á ristil- og endaþarmskrabbameinum. Samanburðar hópur var borinn saman við einstaklinga með samtímis æxli en einnig við einstaklinga greinda með tvö æxli með meira en sex mánaða millibili.
Niðurstöður
Af 2680 einstaklingum greindust 46 (1,7%) með samtímis æxli og 39 (1,5%) með annað síðkomið æxli. Lynch heilkenni var til staðar hjá 89% einstaklinga með samtímis æxli. Hjá sjúklingum sem greindust aftur seinna með æxli var meðallengd á milli greininga 7.7 ár, 66% einstaklinga greindust eftir meira en 5 ár. Hár fylgisjúkdómastuðull (Charlson index > 2) var marktækt algengari meðal hópsins sem fékk aftur æxli á tímabilinu (22% vs 6,9% (p < 0.001).
Ályktanir
Algengi greininga á feiri en einu ristilkrabbameini var fremur lágt líkt og í fyrri rannsóknum. Lynch er áhættuþáttur samtíma æxla og undirstrikar það mikilvægi erfðagreiningar.
Meirihluti einstaklinga sem greindust með annað æxli greindust eftir meira en 5 ár. Hár fylgisjúkdómastuðll gæti bent til þess að klínískt ástand geti haft áhrif á myndun síðkominna æxla.
Notkun amínóglýkósíða hjá börnum á Barnaspítala Hringsins 2012-2024 – Er þörf á skimun fyrir erfðabreytileika og mati á hættu á meðferðartengdri heyrnarskerðingu?
Kristín Helga Þrastardóttir1
Ásgeir Haraldsson2
Sigurður Árnason2
Þórunn Óskarsdóttir2
Valtýr Stefánsson Thors2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Barnaspítali Hringsins, Landspítala, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Amínóglýkósíð eru sýklalyf sem notuð eru til meðferða alvarlegra sýkinga hjá börnum. Gentamísin, amikasín og tóbramysín eru dæmi um slík lyf. Lyfn eru nauðsynleg í meðferð ákveðinna sýkinga en geta valdið óafturkræfum heyrnarskaða, sérstaklega við háa uppsafnaða skammta. Stökkbreytingar í hvatberagenum, svo sem A1555G og C1494T, auka enn frekar hættuna.
Markmið
Að kanna notkun amínóglýkósíða hjá börnum á Íslandi og meta þörf á skimun fyrir erfðabreytileika hjá börnum sem þurfa meðferð með amínóglýkósíðum.
Aðferðir
Upplýsingar um rannsóknarþýðið fengust frá Vöruhúsi gagna á Landspítala um aldur, tegund lyfs, gefð magn, földa lyfagjafa og meðferðardaga. Úr sjúkraskrárkerf Landspítala voru sóttar upplýsingar um skráðar greiningar við lyfagjafr sem voru fokkaðar í ábendingar og undirfokka þeirra eða undirliggjandi vandamál og undirfokka þeirra. Framkvæmd var lýsandi tölfræði og Poisson-aðhvarfsgreining til að meta þróun notkunar yfr tíma.
Niðurstöður
Alls fengu 578 börn 2035 amínóglýkósíð lyfagjafr á tímabilinu. Gentamísin var mest notað en hæsti uppsafnaði skammtur hjá einstaklingi á tímabilinu var með tóbramysín. Algengasta ábending var þvagfærasýking (n=383) og algengustu undirliggjandi vandamál voru hjartavandamál (n=25). 96 börn fengu ≥7 daga meðferð á einu ári. Meðferðardögum með amínóglýkósíðum á hver 1000 börn fækkaði að meðaltali um 1,55% á ári (p < 0,001).
Ályktanir
Marktæk minnkun á notkun amínóglýkósíða síðustu ár gæti endurspeglað aukna meðvitund um eituráhrif lyfanna. Með hliðsjón af algengi langra meðferða og háum uppsöfnuðum skömmtum kæmi til greina að skima fyrir erfðabreytileikum hjá börnum sem líklegt er að þurf langar og endurteknar meðferðir.
Öndunaraðstoð og stuðningur eftir fæðingu hjá fyrirburum fæddum fyrir 32 viku meðgöngu
Kristín Ylfa Guðmundsdóttir1
Kolbrún Gunnarsdóttir2
Sonja Baldursdóttir2
Snorri Freyr Donaldsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Barnaspítali Hringsins, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Meðhöndlun fyrirbura á fyrstu klukkustundinni eftir fæðingu getur haft veruleg áhrif á lífslíkur og heilsufarslegar horfur. Undanfarin ár hefur aukin áhersla verið lögð á staðlað verklag, þar sem beitt er varfærnum inngripum til að draga úr bráðum og langtíma fylgikvillum. Jafnframt er leitast við að efa nærveru og þátttöku foreldra fyrir, við og eftir fæðingu.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif nýs verklags á Vökudeild Barnaspítala Hringsins við móttöku fyrirbura fæddra fyrir 32. meðgönguviku á öndunaraðstoð og annan stuðning fyrstu 72 klukkustundirnar eftir fæðingu, sem gæti bætt horfur barnanna og aukið nærveru foreldra án neikvæðra fylgikvilla.
Aðferðir
Afturskyggn rannsókn sem náði til allra fyrirbura fæddra fyrir 32. meðgönguviku á Íslandi sem hlutu meðferð á Vökudeild Barnaspítala Hringsins. Tilfellahópurinn voru fyrirburar fæddir á tímabilinu 2023-2024 og viðmiðunarhópurinn fyrirburar fæddir á tímabilinu 2019-2020. Upplýsingar um börnin voru fengin úr Vökuskrá, mæðraskrám, sjúkraskrám barnanna og gjörgæslukerf (CIS).
Niðurstöður Tilfellahópurinn innihélt 58 fyrirbura og viðmiðunarhópurinn 71 fyrirbura. Tilfelli voru ólíklegri til að fá öndunaraðstoð með NeoPuff með andlitsmaska við fæðingu (p < 0,001) en líklegri til að fá nCPAP (p < 0,001) og lungnablöðruseyti (p < 0,001). Blóðgjöf var sjaldgæfari meðal tilfella (OR = 0,21; 95% CI: 0,08-0,54; p < 0,001) og húð-við-húð meðferð algengari (p < 0,001). Annar samanburður náði ekki tölfræðilegri marktækni.
Ályktanir
Innleiðing nýs verklags á Vökudeild við móttöku minnstu fyrirburanna hefur leitt til varfærnislegri öndunaraðstoðar, aukinni nærveru foreldra og færri blóðgjafa, án neikvæðra fylgikvilla.
Algengi, meðferð og afleiðingar blóðsega í portbláæðakerfi hjá sjúklingum með bráða brisbólgu
Leifur Árnason1
María Björk Baldursdóttir1,2
Einar Stefán Björnsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Sjaldgæfur fylgikvilli bráðrar brisbólgu (acute pancreatitis, AP) er blóðsegamyndun í portbláæðakerfnu (splanchnic vein thrombosis, SVT). Lítil þekking er á náttúrulegum gangi AP tengds SVT og takmörkuð þekking til staðar varðandi meðferð við slíkum segum.
Markmið
Kanna algengi AP tengdra SVT á Íslandi, áhrif blóðþynnandi meðferðar (AC) á tíðni segaupplausna og blæðingartilfelli.
Aðferðir
Leitað var að ICD-kóðum fyrir sjúkdómsgreininguna bráð brisbólga ásamt blóðsega í portæð, miltisbláæð og eða efri garnahengisbláæð á Landspítalanum árin 2016-2025. Upplýsingum úr sjúkraskrám um eðli bráðu brisbólgunnar og blóðseganna sem og notkun blóðþynnandi lyfa var safnað.
Niðurstöður Árin 2005-2025 greindust 3154 með bráða brisbólgu á Íslandi, 44 greindust í kjölfarið með portbláæðasega. Algengi AP tengds SVT var 1,4%. Meðaltal nýgengis var 1,1 tilfelli per 100.000 íbúa árlega. 34/44 (77%) voru karlkyns og miðgildi aldurs var 62 ár. Tíðni segaupplausna var hærri í hópi þeirra sem fengu ekki AC samanborið við hópinn sem fékk AC (93% vs 53%, p<0,02). Tilfelli blæðinga voru 9 (30%) og dauðsföll voru 4 (13%) í hópi blóðþynnta. Tilfelli blæðinga voru 4 (29%) og dauðsföll 2 (14%) í hópi þeirra sem fengu enga blóðþynningu.
Ályktanir
Blóðþynnandi meðferð var ekki tengd aukinni tíðni segaupplausna, sjúklingar sem fengu ekki blóðþynnandi meðferð höfðu auknar líkur á segaupplausn. Tíðni blæðingatilfella var svipuð milli hópa og blóðþynnandi meðferð jók ekki tíðni blæðingatilfella.
Árangur lungnaendurhæfingar eftir skurðaðgerð við lungnakrabbameini
Magna Þórey Guðbrandsdóttir1
Tómas Guðbjartsson1,2 Guðrún Nína Óskarsdóttir3,4
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Hjarta- og lungnaskurðdeild, Landspítali, Reykjavík, Ísland
3Krabbameinsdeild Háskólans í Lundi, Deild fyrir klínískar rannsóknir, Lund, Svíþjóð 4Lungnasvið Reykjalundar, Reykjalundur, Mosfellsbær, Ísland
Inngangur Þegar einstaklingur greinist með staðbundið lungnakrabbamein er ein helsta meðferðin skurðaðgerð í læknandi tilgangi. Hluti sjúklinga fer í þverfaglega lungnaendurhæfngu á Reykjalundi í kjölfar aðgerðarinnar. Lungnaendurhæfng hefur sýnt sig geta bætt lífshorfur sjúklinga með langvinna lungnateppu en vöntun er á upplýsingum um áhrif hennar á lifun þegar um er að ræða sjúklinga sem hafa farið í lungnakrabbameinsskurðaðgerð
Markmið
Markmið rannsóknarinnar er að kanna árangur lungnaendurhæfngar hjá sjúklingum sem hafa gengist undir lungnakrabbameinsskurðaðgerð með áherslu á lifun.
Aðferðir Rannsóknin er afturskyggn og tekur til 293 einstaklinga sem gengust undir lungnakrabbameinsskurðaðgerð á Íslandi á árunum 2016-2022. Gögn voru fengin úr gagnagrunni frá lungnakrabbameinsrannsóknarhópi Landspítala og sjúkraskrám Reykjalundar. Þátttakendum var skipt í rannsóknarhóp (n=84) með þeim sem höfðu farið í endurhæfngu á Reykjalundi í kjölfar aðgerðar og viðmiðunarhóp (n=207) sem höfðu farið í aðgerð en ekki endurhæfngu. Tveir þátttakendur voru útilokaðir þar sem þeir létust innan 30 daga eftir aðgerðina. Kaplan-Meier lifunargreining var notuð til þess að bera saman lifun hópanna og síðan ein- og fölþáttagreining til þess að meta áhrif ólíkra þátta.
Niðurstöður Rannsóknarhópurinn reyndist hafa marktækt lengri lifun en viðmiðunarhópurinn (HR = 0.3738; 95% CI: 0.2278-0.6132). Í einþáttagreiningunni voru breyturnar aldur við aðgerð, stigun krabbameinsins og endurkoma krabbameinsins marktækar, og því notaðar ásamt þekktum áhættuþáttum í fölþáttagreiningu, sem sýndi marktækan mun á lifun hópanna þó búið væri að leiðrétta fyrir hinum þáttunum.
Ályktanir
Við ályktum að þeir sem fara í lungnaendurhæfngu eftir lungnakrabbameinsskurðaðgerð lif lengur en þeir sem gera það ekki. Endurhæfngin ein og sér gæti skýrt þennan mun, en orsakasamband þarf að rannsaka frekar.
Jákvæðar blóðræktanir á Barnaspítala Hringsins 2006-2024
Maríanna Björg Ingvaldsdóttir1
Ásgeir Haraldsson1,2
Sigurður Árnason2
Valtýr Stefánsson Thors1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Barnaspítali Hringsins, Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Blóðsýkingar barna af völdum baktería og sveppa geta verið alvarlegar. Skjót greining og markviss meðferð spila lykilhlutverk. Mikilvægt er að þekkja helstu sýkingarvalda og sýklalyfanæmi þeirra til að hægt sé að veita bestu meðferð. Forvarnir spila stórt hlutverk og vert að rannsaka hvort breytingar haf orðið á faraldsfræði blóðsýkinga barna eftir að bólusetningar gegn pneumókokkum hófust 2011.
Markmið
Að greina helstu faraldsfræðilega þætti blóðsýkinga barna á Íslandi 2006-2024.
Aðferðir
Jákvæðar blóðræktanir frá Barnaspítala Hringsins á árunum 2006-2024 voru skoðaðar. Gögn fengust frá Sýklafræðideild Landspítala þar sem dagsetning blóðræktunar, kyn, aldur, meinvaldur sem ræktaðist og næmispróf voru skráð. Niðurstöður voru fokkaðar í fóra fokka; sýking, líkleg sýking, líkleg mengun eða mengun. Gögnum var safnað úr sjúkraskrám um undirliggjandi sjúkdóma, fyrirburagreiningar, upptök sýkingar og afdrif hjá börnum með sýkingar eða líklegar sýkingar. Útilokaðar voru jákvæðar ræktanir frá einstaklingum yfr 17 ára aldri.
Niðurstöður Alls ræktuðust bakteríur eða sveppir í 1.532 sýnum frá 997 börnum á Barnaspítala Hringsins á tímabilinu. Stúlkur voru 398 talsins (569 jákvæðar blóðræktanir) og drengir 599 (963 jákvæðar blóðræktanir). 649 (42,4%) fokkuðust sem sýking og 175 (11,4%) sem líkleg sýking. Algengustu bakteríur í sýkingum og líklegum sýkingum voru Escherichia coli og Staphylococcus aureus (102 tilfelli hvor). Frá 2011 ræktaðist Streptococcus pneumoniae af bóluefnishjúpgerð hjá einu barni en hjá 19 börnum árin 2006-2011.
Ályktanir
Algengustu sýkingavaldar í rannsókninni voru S. aureus og E.coli, sem er í samræmi við aðrar rannsóknir. Helstu breytingar á tímabilinu voru greinileg fækkun í tilfellum pneumókokka eftir að bólusetningar með tíugildu bóluefni hófust árið 2011.
Komur á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins 2004-2024
Melkorka Pálsdóttir1
Karitas Gunnarsdóttir2
Valtýr Stefánsson Thors1,2
Rannveig Björk Guðjónsdóttir2
Óskar Örn Óskarsson1,2 Ásgeir Haraldsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands 2Barnaspítali Hringsins, Landspítali
Inngangur
Bráðamóttökur eru mikilvægar deildir í heilbrigðiskerfum, ætlaðar þeim sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna bráðra veikinda eða slysa. Á Íslandi er sérstök bráðamóttaka fyrir börn, staðsett á Barnaspítalanum við Hringbraut, sem sinnir bráðum veikindum barna frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar var að lýsa földa koma og helstu sjúkdómsgreiningum, auk faraldsfræðilegra gagna um aldur, kyn og sveifur í komum, ásamt því að skoða hvaða áhrif Covid-19 faraldurinn hafði.
Aðferðir
Þessi afturskyggna rannsókn náði til allra koma barna til 18 ára aldurs, á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á árunum 2004-2024. Gögn fengust frá Vöruhúsi gagna og Gagnagátt Landspítalans og voru greind með lýsandi tölfræði.
Niðurstöður Komur voru samtals 270.101 á tímabilinu, festar árið 2022. Yfr tímabilið var 72,7% aukning á komum. Komum fækkaði í Covid-19 faraldrinum og fölgaði svo aftur. Meðalaldur barna var 4,7 ár og hlutfall drengja hærra (52%). Miklar árstíðasveifur sáust, með festum komum í mars og fæstum í júlí og ágúst. Flestar komur voru á mánudögum og fæstar á laugardögum. Algengustu sjúkdómsgreiningar voru ótilgreind veirusýking, kviðverkur, hægðatregða, miðeyrnabólga og niðurgangur. Komum vegna miðeyrnabólgu og astma
fækkaði á seinni hluta tímabilsins, á meðan komur vegna öndunarfærasýkinga, hægðatregðu, kviðverkja og bráðaofnæmis urðu algengari.
Ályktanir
Rannsókn þessi sýnir að miklar breytingar urðu á komufölda og sjúkdómsgreiningum barna á tímabilinu. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast með þróun í komuog greiningarmynstri til að aðlaga þjónustu og viðbragðsáætlanir að breyttri þörf.
Notkun ljósabekkja á Íslandi 2004-2024:
Áhrif lagasetningar og tengsl við húðkrabbamein
Sandra Mist Úlfarsdóttir1
Jónas A. Aðalsteinsson2
Bárður Sigurgeirsson1,3
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Icahn School of Medicine, Mount Sinai, New York
3Húðlæknastöðin, Kópavogur, Ísland
Inngangur Þekkt er aukin áhætta á húðkrabbameinum í tengslum við ljósabekkjanotkun. Tíðni húðkrabbameina á Íslandi hefur aukist síðustu áratugi, en árið 2011 var gerð lagabreyting hér sem setti 18 ára aldurstakmark á ljósabekkjanotkun. Á Íslandi eru til gögn um ljósabekkjanotkun yfr 20 ára tímabil.
Markmið
Að kanna breytingu á ljósabekkjanotkun á Íslandi árin 2004-2024, auk annarrar útfólublárrar útsetningar, og rannsaka hvort tengsl séu við breytingar á nýgengi húðkrabbameina á Íslandi. Auk þess verður kannað hvort breyting haf orðið á ljósabekkjanotkun eftir lagabreytinguna og hvort tengsl séu milli ljósabekkjanotkunar og sólbruna.
Aðferðir Gögn um ljósabekkjanotkun Íslendinga fengust úr könnunum frá samstarfshópi um útfólubláa geislun. Opinber gögn um nýgengi húðkrabbameina fengust frá Krabbameinsskrá. Önnur gögn sem tengjast útfólubláum geislum fengust úr ýmsum áttum. Notuð var lýsandi tölfræði ásamt því sem Joinpoint aðhvarfsgreining var notuð til þess að meta hvort marktæk breyting haf orðið á ljósabekkjanotkun á tímabilinu. Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi <0,05.
Niðurstöður Hlutfall þeirra sem fóru í ljós undanfarna 12 mánuði á rannsóknartímabilinu lækkaði úr 28% í 3,9% meðal fullorðinna og úr 29,9% í 7,3% meðal ungmenna. Ljósabekkir voru 1,5/1.000 íbúa höfuðborgarsvæðisins árið 1988 en voru 0,9/1.000 Íslendinga árið 2005 og fækkaði áfram. Nýgengi sortuæxla náði hápunkti í kringum árið 2005 en nýgengi annarra húðkrabbameina hækkaði stöðugt. Joinpoint aðhvarfsgreining sýndi að marktæk breyting varð á ljósabekkjanotkun eftir lagabreytinguna árið 2011.
Ályktanir
Ljósabekkjanotkun Íslendinga hefur minnkað síðustu tvo áratugi en var líklega meiri fyrir aldamót þegar ljósabekkir voru feiri á hverja 1.000 Íslendinga en þeir voru eftir aldamót. Þar sem ákveðinn, en óljós, biðtími er frá útsetningu til myndunar húðkrabbameina eru hugsanlega tengsl á milli ljósabekkjanotkunar og tíðni húðkrabbameina á Íslandi. Lagasetning leiddi einnig til minni ljósabekkjanotkunar meðal ungmenna.
Greining á utanfrumuerfðaefni í forstigum stórglóbúlíndreyris
Waldenströms
Sara Dögg Th. Lárudóttir1
Berglind Ósk Einarsdóttir1
Jón Jóhannes Jónsson1,2
Sigurður Yngvi Kristinsson1,2 Sæmundur Rögnvaldsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítalir, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Stórglóbúlíndreyri Waldenström (Waldenström’s macroglobulinemia, WM) er eitilfrumukrabbamein með ofseytingu einstofna IgM mótefna. Góðkynja einstofna mótefnahækkun (monoclonal gammopathy of undetermined signifcance, MGUS) af IgM gerð er einkennalaust forstig WM. Áhugi hefur verið á því að nýta utanfrumuerfðaefni (cell- free DNA, cfDNA) í blóði til að bæta greiningu þessara sjúkdóma oftast með greiningu stökkbreytinga. Sýnt hefur verið að einfaldari mæling á magni og lengd cfDNA geti haft forspárgild um horfur í sumum krabbameinum. Ekki er þekkt hvort það geti gagnast í áhættustigun IgM MGUS.
Markmið
Að kanna hvort tengsl séu milli magns og lengdar cfDNA við horfur í IgM MGUS.
Aðferðir
Fengin voru gögn frá rannsókninni Blóðskimun til bjargar sem er lýðgrunduð skimunarrannsókn fyrir MGUS. Fengin voru fmm sýni frá sjö einstaklingum sem þróuðu með sér WM eftir greiningu IgM MGUS og tólf einstaklingum sem höfðu IgM MGUS og þróuðu ekki með sér WM. cfDNA var einangrað úr frumufríu plasma með Chemagic 360 og það magnmælt með Qbit tæki. Lengd cfDNA var svo metið með Bioanalyser. Magn og lengd cfDNA var borið saman með t-próf.
Niðurstöður
Alls voru 94 cfDNA plasma sýni magn- og lengdargreind. Þátttakendur sem greindust síðar með WM höfðu marktækt meira cfDNA en þeir sem höfðu stöðugt IgM MGUS (52,6 ng/mL vs 28,1 ng/mL; p=4,9×10-6 Ekki reyndist munur á lengd cfDNA búta.
Ályktanir
Magn cfDNA reyndist marktækt meira hjá einstaklingum með IgM MGUS sem síðar fá WM. Einföld magnmæling á cfDNA gætu þannig nýst til að spá fyrir um horfur í IgM MGUS.
Tíðni og ábendingar gangsetninga fyrir 39 vikna meðgöngu
Sigurbjörg Ýr Sigtryggsdóttir1
Emma Marie Swift2
Viktoría Ýr Sveinsdóttir1
Jóhanna Gunnarsdóttir1,3
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
3Kvennadeild Landspítala, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Börnum farnast almennt best að fæðast milli 39 og 40 vikur. Tíðni gangsetninga hefur verið að aukast hérlendis og erlendis. Því er mikilvægt að kanna hvaða ástæður liggja þar að baki.
Markmið
Markmið voru að kanna þróun á tíðni gangsetninga og upphaf fæðinga fyrir 39 vikna meðgöngu, ásamt ábendingum gangsetninganna.
Aðferðir
Rannsóknin var lýðgrunduð ferilrannsókn á öllum fæðingum á árunum 2000–2024 (n=110.117). Gögn um móður, meðgöngu og fæðingu voru fengin frá Fæðingarskrá Landlæknis. Úrvinnsla afmarkaðist að mestu við lifandi einburafæðingar fokkað eftir meðgöngulengd 34+0–36+6 (síðfyrirburafæðingar) og 37+0–38+6 (snemmburafæðingar).
Niðurstöður Tíðni gangsetninga fyrir 39 vikur jókst úr 2,4% í 10,2%. Línulegt líkan og MannKendall próf staðfestu marktæka aukningu (p<0,001). Skráningu ábendingar vantaði fyrir um helming allra gangsetninga. Algengustu ábendingar gangsetninga voru fyrirmálsrifnun himna (síðfyrirburafæðingar: 17,4% og snemmburafæðingar: 8,4%) og meðgöngueitrun (síðfyrirburafæðingar: 15,7% og snemmburafæðingar: 10,8%). Meðal þeirra sem vantaði skráningu ábendingar voru þessar greiningar móður mjög algengar (um þriðjungur síðfyrirburafæðinga og um fmmtungur snemmburafæðinga). Samanborið við síðfyrirburafæðingar var ábending gangsetninga meðal snemmburafæðinga oftar vegna undirliggjandi sjúkdómsástands móður.
Ályktanir
Tíðni gangsetninga fyrir 39 vikur jókst á tímabilinu. Þörf er á verulegum umbótum varðandi skráningu ábendinga. Fyrirmálsrifnun himna og meðgöngueitrun voru algengustu ábendingarnar. Yfrfara þarf nánar hvort skráðar ábendingar samræmast allar núverandi ráðleggingum um verklag um gangsetningar fyrir 39 vikur.
Nýgengi innlagna á Landspítala Háskólasjúkrahús vegna samfallsbrota í hrygg 2022-2024
Sigurður Arnar Hannesson1
Elías Sæbjörn Eyþórsson1,2 Hjálmar Ragnar Agnarsson1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands 2Bráðalyfækningadeild Landspítala
Inngangur
Samfallsbrot í hrygg er algengur áverki sem oftast verður við lágorkuáverka. Beinþynning er algengasta orsök samfallsbrota í hrygg en þegar samfallsbrot verður við lágorkuáverka telst það merki um beinþynningu. Samfallsbrot eru yfrleitt ekki hættuleg en geta valdið töluverðri færniskerðingu og kallað á langa spítaladvöl og endurhæfngu.
Markmið
Fjöldi þeirra sem leggjast inn á Landspítala vegna samfallsbrota í hrygg er óþekktur. Markmið þessarar rannsóknar er að kortleggja betur sjúkrahúsþjónustu vegna samfallsbrota í hrygg í aðdraganda nýs meðferðarúrræðis.
Aðferðir Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn sem náði til einstaklinga 18 ára og eldri sem lögðust inn á Landspítala Háskólasjúkrahús á tímabilinu 2022-2024 og fengu greiningarkóða úr alþjóðlegu fokkunarkerf sjúkdóma (ICD-10) sem samrýmdist samfallsbroti í hrygg. Listi yfr kennitölur þessara einstaklinga var fenginn frá Hagdeild Landspítala ásamt útskriftardagsetningu og greiningarkóða. Farið var yfr sjúkraskrár þeirra og upplýsingarnar skráðar á staðlaðan hátt í gagnagrunn í RedCap sem var hannaður til að svara rannsóknarspurningunum.
Niðurstöður
Af þeim 630 einstaklingum sem voru skimaðir, reyndust 338 (53,7%) vera með samfallsbrot í hrygg. Algengast var að samfallsbrot áttu sér stað við lágorkuáverka (58,9%) en meðalaldur var hæstur meðal þeirra sem hlutu samfall án áverka (80,3 ár). Samfallsbrot voru töluvert algengari meðal kvenna (71,3%) en karla (28,7%). Um helmingur (51,9%) brota átti sér stað á mótum brjósthryggjar og lendhryggjar (T12-L2). Einungis 39,1% þeirra sem höfðu fyrri sögu um samfallsbrot í hrygg voru á beinþynningalyfum við komu. Um helmingur (42,7%) fékk beinþynningarmeðferð innan 90 daga frá útskrift. Legutími var að meðaltali 16,3 dagar og 63,5% útskrifuðust í endurhæfngarúrræði. Stór hluti (81%) útskrifaðist á ópíóíðum.
Ályktanir
Samfallsbrot í hrygg eru algeng, sérstaklega meðal kvenna eldri en 60 ára. Sjúklingar þurfa yfrleitt að liggja lengi inni á spítala og stór hluti þeirra útskrifast í endurhæfngarúrræði. Minnihluti þeirra sem höfðu fyrri sögu um samfallsbrot í hrygg voru á beinþynningalyfum við komu og um helmingur fékk ávísað beinþynningarlyf innan 90 daga frá útskrift. Stór meirihluti ætti að fá beinþynningargreiningu og meðferð eftir fyrsta samfallsbrot.
Nýgengi og áhættu-
þættir fyrirburaaugnsjúkdóms 2009-2024
Snædís Óskarsdóttir1
Þórður Þórkelsson2,3
Dýrleif Pétursdóttir2,4
Þórður Þórarinn Þórðarson2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Landspítali, Reykjavík, Ísland 3Domus Barnalæknar Kópavogur, Ísland 4Sjónlag, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Fyrirburaaugnsjúkdómur (e. Retinopathy of Prematurity, ROP) lýsir sér sem afrigðilegum æðavexti í sjónhimnu sem sést hjá fyrirburum og nýgengi ROP er í öfugu hlutfalli við meðgöngulengd. ROP er algengasta ástæða blindu barna á heimsvísu. Nýgengi fyrirburafæðinga hefur farið hækkandi á Norðurlöndum. Rannsókn var gerð á Íslandi á nýgengi ROP hjá fyrirburum árin 2002 til 2008 sem sýndi að nýgengi ROP var 19%.
Markmið
Markmið rannsóknarinnar er að skoða nýgengi ROP, nýgengi ROP sem krefst meðferðar og helstu áhættuþætti ROP.
Aðferðir Rannsóknin var afturskyggn ferilrannsókn og tilfella-viðmiðarannsókn. Sjúkraskrár allra fyrirbura frá árinu 2009 til og með 2024, sem voru fædd fyrir 33.vikna meðgöngu og undir 1.500 gr við fæðingu voru skoðaðar.
Niðurstöður Nýgengi ROP í rannsóknarhópi var 25,8% og nýgengi alvarlegs ROP var 8,6%. Alls voru 20% meðferð sem þurftu meðferð sem samsvarar að meðaltali 1,25 tilfelli á ári. Hlutfallslegt nýgengi og alvarleiki ROP hefur einnig hækkað á rannsóknartímabilinu. Marktækur munur var milli tilfellahóps og viðmiðunarhóps á breytunum aldur án viðbótarsúrefnis, innlagnarlengd, földi blóð-, plasma- og blóðfagnagjafa. Hæstu gagnlíkindi þættir barns var blóðþrýstingshækkandilyf (2,86), blóðfagnagjöf (2,78) og gjöf lungnablöðruseytis (2,06).
Ályktanir
Talsverð aukning hefur orðið á nýgengi ROP á Íslandi eða frá 19% (2002 - 2008) til 25,8% (2009 - 2024). Einnig hafa tilfelli ROP þar sem þörf er á meðferð hækkað úr 0,57/ári (2002- 2008) í 1,25/ári (2009 - 2024).
Tengsl þekktra áhættuþátta við ROP voru einnig stutt í þessari rannsókn.
Árangur af aðgerðum á síugangi augans í illvígri gláku (canaloplasty)
Trausti Felix Valdimarsson1
Ólöf Birna Ólafsdóttir 1,2
María Soffía Gottfreðsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Gláka er krónískur sjúkdómur sem herjar á sjóntaug augans með óafturkræfum skemmdum sem koma fram á sjónsviði og þá yfrleitt fyrst jaðarsjón. Eina áræðanlega meðferð gláku er lækkun augnþrýstings í forhólf augans. Þegar lyfameðferð með augndropum nægir ekki til þess að halda þrýstingnum niðri er gerð þrýstingslækkandi skurðaðgerð
Markmið
Markmið rannsóknarinnar er að athuga árangur aðgerða á síugang augans (Canaloplasty) á Landspítala frá árunum 2013-2023.
Aðferðir
Framkvæmd var afturvirk gagnarannsókn þar sem gögnum sjúklinga sem höfðu farið í Canaloplasty á 11 ára tímabili var safnað. Breytur sem skoðaðar voru aldur, kyn, sjúkdómsgreining og síðan var augnþrýsting, sjónsviði, sjónskerpu og glákulyfum safnað á mörgum tímapunktum til að meta breytingar með tilliti til tíma eftir aðgerð
Niðurstöður Af 77 augum í úrtakinu voru 63 einstaklingar, þar af 14 sem gengust undir aðgerð á báðum augum. Rúmur helmingur, 34 (54%) einstaklingar voru karlar. Vinstri augu voru 40 (63%). Meðalaldur í aðgerð var tæplega 59 ára og af þeim sem fóru í aðgerð á báðum augum var rétt rúmlega 57 ára. Í rannsókninni voru 60 POAG og 17 PEX. Sex mánuðum eftir aðgerð var 43% lækkun á augnþrýstingi og 79% lækkun á glákulyfanotkun. Tölfræðigreining á augnþrýstingi og lyfabreytingum mælir marktækan mun (P<0,0001) eftir aðgerð
Ályktanir
Það sem að rannsókn þessi nær að sýna er að Canaloplasty sé góður kostur til grípa til þess að lækka augnþrýsting og glákulyf án flgikvilla annarra inngripsmeiri aðgerða. Niðurstöður þessarar rannsóknar er í samræmi við aðrar rannsóknir sem hafa verið gerðar erlendis.
Mæ
Unnur María Agnarsdóttir1
Guðrún Nína
Óskarsdóttir2
Inga Sigurrós Þráinsdóttir2
Arna Elísabet Karlsdóttir2
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Reykjalundur, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Offta er fókinn sjúkdómur sem getur valdið fylgisjúkdómum. Einstaklingar með offtu fnna oft fyrir mæði en óljóst er hvenær þörf er á frekari rannsóknum.
Markmið
Að kanna hversu hátt hlutfall einstaklinga sem koma í þverfaglega offtumeðferð upplifa mæði og hvort það séu aðrar skýringar fyrir mæðinni en offtan. Að kanna hvort hægt sé að styðjast við einfaldan kvarða um mæði til að meta þörf á frekari rannsóknum.
Aðferðir
Staðlaður kvarði (modifed Medical Research Council, mMRC) var notaður til að meta mæði hjá 28 skjólstæðingum í offtumeðferð. Þeim sem uppfylltu skilgreiningu á mæði samkvæmt kvarðanum var boðin þátttaka. Þátttakendur fóru í ítarlegar hjarta- og lungarannsóknir, líkamsgreiningu, 6 mínútna göngupróf, svefnrannsókn og blóðprufu og svöruðu spurningalistum um andlega líðan og hreyfngu. Safnað var upplýsingum um heilsufar, fölskyldusögu, hjúskaparstöðu, reykingar-, áfengis- og fíkniefnasögu ásamt lyfasögu. Notast var við almenna lýsandi tölfræði og einþátta fervikagreiningu með stikalausa prófnu Kruskal-Wallis.
Niðurstöður
21 einstaklingur (75%) mátu mæði sína ≥2 stig á mMRC (2 stig (n=8), 3 stig (n=7) og 4 stig (n=6)). 66,7% voru konur og meðalaldur var 44 ár. Dreifng líkamsþyngdarstuðuls (LÞS) var 37,5-65 kg/m2. Rannsóknar niðurstöður voru afrigðilegar afrigðilegar hjá 5 einstaklingum sem fóru í kjölfarið í frekari uppvinnslu. Ekki var marktækur munur milli hópa m.t.t. stigafölda á mMRC né LÞS þegar kom að niðurstöðum úr hjarta- og lungnarannsóknum.
Ályktanir
Stór hluti einstaklinga með alvarlega offtu fnna fyrir mæði. Hjarta- og lungnarannsóknir voru afrigðilegar hjá 28%. Ólíklegt er niðurstöður úr mMRC kvarða dugi til þess að ákveða þörf á frekari rannsóknum hjá þessum hópi.
Úttaugamein tengt einstofna góðkynja mótefnahækkun
Vigfús Höskuldur Orri Árnason1
Aðalbjörg Ýr Sigurbergsdóttir1,2
Sigurður Yngvi Kristinsson1,2 Sæmundur Rögnvaldsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Íslensk Erfðagreining, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Góðkynja einstofna mótefnahækkun (e. monoclonal gammopathy of undetermined signifcance, MGUS) er einkennalaust forstig mergæxlis og skyldra sjúkdóma sem hefur þó verið tengt við földa annarra heilsufarskvilla, þar á meðal úttaugamein. MGUS greinist iðulega fyrir tilviljun við uppvinnslu annarra sjúkdóma og tengsl milli MGUS og margra sjúkdóma því sennilega ofmetin. Rannsókn á skimuðu þýði gæti varpað ljósi á hver raunverulegu tengslin séu milli MGUS og úttaugameins.
Markmið
Að kanna umfang og algengi úttaugameins á meðal einstaklinga með MGUS, samanborið við þá sem ekki eru með MGUS.
Aðferðir Blóðskimun til bjargar veitti gögn um skimunarniðurstöður og taugaeinkenni sem voru metin með Neuropathy Symptom Score (NSS) og Douleur Neuropathique 4 (DN4). Frá Íslenskri Erfðagreiningu fengust niðurstöður taugaleiðniprófa. Heildarstigaföldi úr NSS (0-9 stig) og DN4 (0-7 stig) var reiknaður fyrir hvern spurningalista. Ef einstaklingur hafði svarað oftar en einu sinni var stuðst við nýjasta svarið með hæsta stigaföldanum. Notast var við línulega og lógístíska aðhvarfsgreiningu til samanburðar á NSS stigum, DN4 stigum og taugaleiðni á milli hópa með og án MGUS annars vegar og milli MGUS undirfokka hins vegar. Leiðrétt var fyrir aldri og kyni.
Niðurstöður 75,422 einstaklingar, 40 ára og eldri, höfðu verið skimaðir, 53721 höfðu svarað a.m.k einum spurningalista og 2574 þeirra höfðu MGUS og 6331 höfðu farið í taugaleiðnipróf og 315 höfðu MGUS. MGUS tengdist 18% hærri gagnlíkindum á taugaeinkennum s.kv. NSS (Gagnlíkindahlutfall (GH) = 17,78; 95% Öryggisbil (ÖB): 1,05-1,33; p=0,0066) en 24% lægri gagnlíkindi á taugaverkjum skv DN4 (GH=0,758; 95%ÖB: 0,68-0,85; p<0,001). Ekki var marktækur munur á niðurstöðum taugaleiðniprófa.
Ályktanir
NSS niðurstöðurnar ríma við þær kenningar að MGUS tengist fremur vægum en alvarlegum taugaeinkennum en nokkuð óvænt að minni líkur séu á taugaverkjum. Það að ekki sjáist afgerandi áhætta á úttaugameini hjá einstaklingum með MGUS bendir til að algengi MGUS úttaugameins sé minna en hefur áður verið talið
Hlutverk E318K breytileikans, sem eykur áhættu á sortuæxlum, í virkni MITF
Ásdís
Karen Árnadóttir1
Hong Nhung Vu1 Eiríkur Steingrímsson1
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Microphthalamia-associated transcription factor (MITF) er umritunarþáttur sem gegnir lykilhlutverki í þroskun, sérhæfngu, lifun og fölgun litfrumna. Stjórnun á virkni MITF er háð fölmörgum umbreytingum eftir þýðingu próteinsins, svo sem fosfæringum, acetýleringum og SUMOyleringum. Í sortuæxlum hefur MITF margvísleg hlutverk, en mögnun á MITF fnnst í um 10-20% tilfella. Auk þess hefur verið sýnt að breytileikinn E318K í MITF tengist 2-5 falt aukinni áhættu á sortuæxlum en breytileikinn hindrar SUMOyleringu á MITF og minnkar stöðugleika próteinsins. MITF-E318K próteinið binst DNA mun víðar í erfðamenginu heldur en villigerð en áhrif á tjáningu markgena eru mjög lítil. Lítið er vitað um hvernig þessi breyting eykur líkur á sortuæxlum.
Markmið
Ákvarða hvaða SUMO-prótein eru tengd við MITF og hvaða áhrif SUMOylering hefur á stöðugleika MITF.
Aðferðir
Til að bæla tjáningu SUMO1 og SUMO 2/3 var siRNA innleitt í A375P sortuæxlisfrumur. Virkni genabælingar var könnuð með qPCR. Mótefnafelling (co- immunoprecipitation) með Flag-, SUMO1- og SUMO2/3-mótefnum var framkvæmd til að greina hvaða SUMOprotein bindast við MITF, og niðurstöður greindar með western blot greiningu. Til að meta stöðugleika MITF voru frumurnar meðhöndlaðar með syclohexamíði í mislangan tíma og próteinmagn mælt með western blot greiningu. Helmingunartími MITF var síðan reiknaður.
Niðurstöður og ályktanir Engar breytingar sáust á MITF eftir bælingu SUMO-genanna og mótefnafelling með Flag-mótefnum. Mótefnafelling með SUMOmótefnum leiddi í ljós að SUMO1 binst við MITF. Meðferð með syclohexamíði sýndi að bæling á SUMO virðist auka stöðugleika MITF. Þessar niðurstöður benda til þess að aðrir þættir en SUMOylering ein og sér kunni að valda aukinni hættu á sortuæxlum hjá einstaklingum sem bera E318K stökkbreytinguna og krefst þetta því frekari rannsóknar.
á Kvennadeild Landspítala
Áslaug Ingileif Halldórsdóttir¹
Kolbrún Pálsdóttir2
Hjörtur Már Reynisson4
Hallgerður Lind Kristjánsdóttir1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands
2Kvennadeild Landspítala
3Blóðlækningadeild Landspítala
4Svæfnga og gjörgæsludeild Landspítala
Inngangur
Sýnt hefur verið fram á að fyrirbyggjandi gjöf tranexamic sýru minnki blæðingu í aðgerðum og minnki blóðhlutagjafr um allt að 25%. Markmið rannsóknar var að skoða notkun tranexamic sýru og blóðhlutagjafr í opnum aðgerðum á Kvennadeild Landspítalans.
Aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn hóprannsókn á sjúklingum sem fóru í opna aðgerð á Kvennadeild Landspítala 2019 til 2024. Kennitölur voru fengnar af sjúklingalista frá Hagdeild Landspítala og gögnum safnað úr sjúkraskrárkerfum. Í þessu þýði eru allir sjúklingar sem fóru í aðgerð 20192021 og sjúklingar sem fóru í aðgerð vegna krabbameins 2019-2024. Tíðni gjafar tranexamic sýru var skoðuð eftir árum sem og heildrænt, ásamt tíðni og magni gjafa blóðhluta.
Niðurstöður Rannsóknarþýðið voru 300 einstaklingar. Algengustu tegundir aðgerða voru legnám (n=215) og eggjaleiðara- og eggjastokksnám, báðum megin (n=159). Algengustu greiningar voru illkynja æxli í eggjastokki (n=79) og sléttvöðvaæxli í legi (n=77). Meðalaldur sjúklinga var 55,56 ára (spönn 20-90).
Tranexamic sýra var gefn 52 sjúklingum, lyfagjöf var aldrei fyrirfram ákveðin eða gefn fyrirbyggjandi. Tíðni gjafar tranexamic sýru var 9,3% árið 2019, 15,4% árið 2020, 24,4% árið 2021, 19,1% árið 2022, 26,9% árið 2023 og 18,2% árið 2024.
Magn blæðinga í aðgerð var að meðaltali 364,4 ml (0-7500). Í 16,3 % tilfella (n=49) voru gefnir blóðhlutar í eða vikuna eftir aðgerð. Algengust var gjöf rauðkornaþykknis, að meðaltali 3,04 einingar (spönn 1-12).
Ályktanir
Transexamic sýra var ekki notuð í fyrirbyggjandi tilgangi. Á fyrstu þremur árum tímabilsins virðist vera aukning á notkun tranexamic sýru. Skoða þarf betur markvissari gjöf lyfsins við opnar skurðaðgerðir á Kvennadeild Landspítala.
Notkun mismunandi ísóforma utangenaerfðakerfisins við taugaþroska og mikilvægi þeirra í sjúkdómum tengdum utangenaerfðakerfinu.
Úlfur Benedikt Fjölnisson1
Katrín Möller1
Hans Tómas Björnsson1,2,3
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland 2Johns Hopkins University, Baltimore, USA 3Landspítali, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Stökkbreytingar í genum utangenakerfsins (EM) tengjast oft taugaþroskaröskunum. Skilningur á ísóformsértækri tjáningu og dreifngu meinvaldandi stökkbreytinga í exónum getur varpað ljósi á undirliggjandi sjúkdómsferla.
Markmið
Að meta hvort mispörunarstökkbreytingar sýni aukna þéttni í ísóformsértækum óhefðbundnum exónum, hvort þessi ísóform séu tjáð á tilteknum stigum taugaþroska og hvort þau gegni hlutverki í EM-tengdum sjúkdómum.
Aðferðir
Notuð voru gagnasöfnin ClinVar, gnomAD og Ensembl BioMart til að greina þéttni stökkbreytinga í einstökum ísóformsértækum exónum í EM-genum og í öllu erfðamenginu. Fisher próf með FDR-leiðréttingu var notað til að prófa hvort algengi ClinVar miðað við gnomAD mispörunarbreytingar var marktækt öðruvísi. RNA-raðgreiningargögn úr taugaþroskalíkani músar voru greind með ANOVA og Tukey HSD til að fnna marktækan mun á tjáningu ísóforma á dögum 0 (npc), 3, 6 og 12 taugaþroska. Samsett stig sem tók mið af tjáningu ísóforma og þéttni stökkbreytinga var notað til að forgangsraða genum.
Niðurstöður
Genið CHD3 var með hæsta samsetta stigið meðal EM-gena með endanlegt líkindahlutfall (OR=172). Óhefðbundna ísóform CHD3 ENST00000682063 var marktækt meira tjáð á degi 12 í taugaþroska (fdr=5.7e-05; log2 fold change>2). Svæðagreining sýndi að meinvaldandi clinvar mispörunarbreytingar safnast á ákveðin próteinsvæði CHD3.
Ályktanir
Við höfum fundið CHD3-ísóform sem er tjáð seint í taugaþroska og inniheldur exónu með mikla þéttni sjúkdómsvaldandi mispörunarbreytinga. Meðferðir sem hafa áhrif á splæsingu gætu mögulega virkað sem lyf fyrir CHD3 sjúkdóm.
Breast cancer whole-slide images used to predict homologous recombination deficiency, BRCA2 999del5 and TP53 mutations via weakly supervised deep learning
Ýr Ý Nhu Tran1, Roderic Espín2,3
Victor Raul Moreno Aguado3
Stefán Þ. Sigurðsson1,4
Jón Gunnlaugur Jónasson1,5
Miquel Angel Pujana2,3
Sigríður Klara Böðvarsdóttir4
1Faculty of Medicine, University of Iceland, Reykjavik, Iceland; 2Bellvitge Institute for Biomedical Research (IDIBELL), Barcelona, Spain;
3Catalan Institute of Oncology (ICO), Barcelona, Spain; 4Biomedical Center, University of Iceland, Reykjavik, Iceland;
5Department of Pathology, National University Hospital, Reykjavik, Iceland
Introduction
Recent advances in deep learning have enabled biomarker prediction and tumour classifcation from haematoxylin and eosin (H&E) wholeslide images (WSIs).
Aim
To evaluate whether weakly supervised deep learning can be used on WSIs to predict homologous recombination defciency (HRD), BRCA2 999del5 and TP53 mutations in breast tumours.
Methods
H&E WSIs from an Icelandic breast cancer cohort (n=771), diagnosed between the years 1935–2013, were collected and scanned at 40x magnifcation. Clinical and mutational data were obtained from the Department of Pathology, National University Hospital and the Cancer Research Laboratory, Faculty of Medicine. STAMP and CLAM pipelines were applied to the WSIs for classifcation. The WSIs were downsampled and preprocessed, features were extracted from them and used for training the models. Model performance was evaluated using the area under the curve (AUC), and 95% confdence intervals were calculated through bootstrapping. For STAMP, TCGA from the GDC Data Portal was used as external data to validate the model performance in BRCA2 and TP53 classifcation.
Results
Of 771 WSIs used, 228 were classifed as HRD, 202 were from BRCA2 999del5 carriers, and 343 were analysed for TP53 mutations. For both models, the AUCs for all classifcations were above 0.7. For STAMP, AUCHRD=0.81 (0.73–0.89), AUCBRCA2=0.79 (0.67–0.89), and AUCTP53=0.78 (0.64–0.91). For CLAM, AUCHRD=0.76 (0.72–0.79), AUCBRCA2=0.76 (0.72–0.80), and AUCTP53=0.75 (0.68–0.82).
Conclusion
Weakly supervised deep learning was able to predict the HRD, BRCA2 999del5 and TP53 statuses from WSIs, offering potential for clinical integration in breast cancer diagnostics.
Áverkafræði banvænna
höfuðáverka vegna sljórra krafta
Þuríður Erna Hvanndal Halldórsdóttir1
Pétur Guðmann Guðmannsson1,2
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
2Meinafræðideild Landspítalans, Reykjavík, Ísland
Inngangur
Að ákvarða dánaratvik við banvæna höfuðáverka með réttarkrufningu er áskorun. Hefð er fyrir því að taka mið af staðsetningu áverkanna, t.d. útfrá hliðrun/hliðarvali og svokallaðri hattlínu, en vaf ríkir um vísindaleg gildi þessa. Þá hefur verið litið til földa kraftatburða gegnt höfðinu.
Markmið
Að kanna hvort tengsl séu, í banvænum höfuðáverkum, á milli földa og ákomustaðsetningar kraftatburða annarsvegar og dánaratvika hinsvegar.
Aðferðir Fyrir dauðsföll á árunum 2009 - 2024 vegna sljórra höfuðáverka, voru krufningar- og lögregluskýrslur ásamt myndum í gagnagrunni meinafræðideildar Landspítalans skoðaðar.
Aðfallsgreiningu var beitt til að kanna hvort samband væri á milli dánaratvika (slys, manndráp, sjálfsvíg, óvíst) og ákomustaðar kraftanna ásamt földa kraftákoma.
Niðurstöður
Fjöldi tilfella var 127, þar af 11 manndráp og 105 slys. Meðalföldi kraftákoma í manndrápum var 9,45 og í slysum 3,03. Manndráp sýndu þannig 3,12 sinnum feiri kraftburði en slys (p<0,05, 95% öryggisbil: 2,49;3,88). Samanburður á kröftum með tilliti til hægri eða vinstri hliðar sýndi ekki marktækan mun. Einnig sýndi samanburður milli tilfella þar sem kraftar höfnuðu í hattlínu og tilfella þar sem kraftar höfnuðu utan hattlínu ekki marktækan mun. 15,4% slysa (n=16) og 81,1% manndrápa (n=9) höfðu áverka á eyrum. Manndráp sýndu þannig 24,8- föld gagnlíkindi á að vera með áverka á eyrum (p<0,05, 95% öryggisbil: 5,7;172,8) samanborið við slys.
Ályktanir
Hár földi kraftburða og áverkar á eyrum má kannski túlka sem vísbendingar um manndráp. Hattlínan, sem takin hefur verið svæði „góðkynja áverka“ sýnir hins vegar ekki mun milli dánaratvika.
Tengsl áfalla í æsku við mígreni meðal kvenna á Íslandi
Þórunn Perla Jóhannsdóttir1
Edda Björk Þórðardóttir1
1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland
Inngangur Mígreni er algengur tauga- og æðasjúkdómur sem einkennist af sárum höfuðverkjum og getur haft veruleg áhrif á lífsgæði. Fyrri rannsóknir hafa sýnt tengsl milli áfalla í æsku og ýmissa heilsufarsvandamála, þar á meðal vísbendingar um tengsl við mígreni, en slíkt samband hefur ekki verið rannsakað í íslensku þýði.
Markmið
Að kanna hvort áföll í æsku tengist auknum líkum á því að hafa greinst með mígreni á meðal kvenna, þá sérstaklega földi áfalla.
Aðferðir Þátttakendur voru 14.240 konur sem tóku þátt í ferilrannsókninni Áfallasaga kvenna (1869 ára;meðalaldur: 45 ára). Þrettán tegundir áfalla voru metin með spurningalistanum
Adverse Childhood Experiences International Questionnaire. Mígreni var metið með spurningunni: „Hefur þú verið greind með mígreni?“. Gagnlíkindahlutfall (GH) með 95% öryggisbili (ÖB) var notað til að meta samband áfalla í æsku og mígrenis. Leiðrétt var fyrir aldri, félags- og lýðfræðilegum þáttum, líkamsþyngdarstuðli, áfengisneyslu og reykingum.
Niðurstöður
Af 14.240 konum, greindu 22% frá því að hafa greinst með mígreni einhvern tímann á lífsleiðinni. Þá höfðu 25% kvenna upplifað ≥4 áföll í æsku. Jákvæð fylgni fannst á milli földa áfalla í æsku og mígrenis. Konur sem höfðu upplifað ≥4 áföll í æsku voru1,89 sinnum líklegri til að vera með mígreni miðað við konur sem höfðu ekki upplifað áfall í æsku (95% ÖB: 1,68 – 2,14).
Ályktanir
Niðurstöður benda til tengsla milli áfalla í æsku og mígrenis meðal kvenna. Aukin þekking á áhrifum áfalla í æsku á taugakerfð og streituviðbrögð, og hvernig þau tengjast sjúkdómum eins og mígreni, getur haft mikilvægt gildi fyrir þróun meðferðarúrræða fyrir þennan sjúklingahóp.





