Skip to main content

Eystrahorn 9.tbl 2026

Page 1

EYSTRAHORN 9. tbl. 44. árgangur 5. nóvember 2026


HRÓSIÐ

Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is.

DREIFING OG ÚTBURÐUR EYSTRAHORNS Að þessu sinni barst mér í fyrsta skipti ekkert hrós frá lesendum Eystrahorns. Ég ákvað því að nýta tækifærið og hrósa sjálf. Mig langar að hrósa þeim sem hafa aðstoðað mig við útburðinn á Eystrahorni. Ég er stundum spurð hvers vegna ég láti ekki Póstinn bara sjá um að bera blaðið út. Það væri auðvitað þægilegt, en Pósturinn býður því miður ekki lengur upp á dreifingu fjölpósts eins og áður. Þess í stað hefur myndast einstaklega falleg stemning í kringum útburð blaðsins. Eystrahorni er nefnilega dreift um allt sveitarfélagið og jafnvel víðar með aðstoð yndislegra sjálfboðaliða! Við erum með lista yfir rúmlega 40 manns sem hafa ýmist borið út, eru að bera út eða langar að fá að bera út blaðið. Mér finnst það alveg frábært og við erum svo þakklát fyrir þennan hóp. Hjálpin er alls konar. KASK flutningar aðstoða okkur við að koma blaðinu austur á Höfn og þegar það er komið hingað kem ég blaðabunkum til sjálfboðaliða sem dreifa því í hús. Glacier Journey kemur blaðinu með skólabílnum á flesta bæi í Suðursveit og á Mýrum. Petar skólabílstjóri í Öræfum og Eyrún á Freysnesi hafa aðstoðað mig með Öræfin. Svo eru það allir einstaklingarnir sem taka að sér útburð á Höfn, í Nesjahverfi og í Lóni. Sjálf keyri ég blaðið á bæi í Nesjum og til þeirra sem skólabíllinn nær ekki til. Ég má ekki gleyma að minnast á mömmu og pabba sem hafa tekið að sér að dreifa blaðinu til áskrifenda í flestum hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Það eru því ansi margar hendur sem koma að hverju tölublaði eftir að það kemur úr prentun! Þetta léttir mikið undir með okkur, svo ég tali ekki um hversu hvetjandi það er að finna þessa velvild í garð blaðsins. Það er ekki

sjálfsagt að fólk gefi sér tíma í útburð og ég vil að þið vitið hvað við kunnum vel að meta það. Til allra sem hafa hjálpað, hvort sem það hefur verið einu sinni eða við hvert blað: takk kærlega fyrir! Og til ykkar sem eruð á lista og bíðið eftir lausu plássi: takk fyrir að vilja vera með. Ég heyri örugglega í ykkur við tækifæri! Þið eigið hrósið svo sannarlega skilið.

GUÐRÚN ÁSDÍS Ritstjóri

Eystrahorn 10. TÖLUBLAÐ

FRAM AÐ ÁRAMÓTUM Útgáfudagar og skilafrestir 2026

11. TÖLUBLAÐ

12. TÖLUBLAÐ

Fimmtudaginn

Fimmtudaginn

Fimmtudaginn

19. nóvember

3. desember

17. desember

Skilafrestur

Skilafrestur

Skilafrestur

AUKABLAÐ

13. nóvember

27. nóvember

11. desember EYSTRAHORN 2026

eystrahorn@eystrahorn.is Útgefandi: HLS ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir Netfang: eystrahorn@eystrahorn.is Sími: 867 6604 Heimasíða: www.eystrahorn.is

JÓLABLAÐ

Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes Umbrot: Tjörvi Óskarsson Forsíðumynd: Þorvarður Árnason, Steinafjall í Suðursveit Prentun: Litlaprent ISSN 1670-4126


FYRIR SAMFÉLAGIÐ

BAKHJARLAR EYSTRAHORNS Eystrahorn er að byggja upp fastari og fyrirsjáanlegri tekjugrunn fyrir áframhaldandi útgáfu blaðsins. Fyrirtæki og stofnanir geta gerst bakhjarlar Eystrahorns, annaðhvort með reglulegum stuðningi eða föstum auglýsingabirtingum. Hvort tveggja skiptir miklu máli fyrir reksturinn og hjálpar okkur að tryggja áframhaldandi útgáfu. Bakhjarlar fá sýnileika á eystrahorn.is og eftir umfangi stuðnings einnig í blaðinu. Við þökkum þeim fyrirtækjum og stofnunum sem þegar styðja við útgáfuna kærlega fyrir stuðninginn. Næsta tölublað - Útgáfudagur. 19. nóvember - Skilafrestur föstudagurinn 13. nóvember

BAKHJARLAR EYSTRAHORNS

Nafn fyrirtækis

Nafn fyrirtækis

Nafn fyrirtækis

Nafn fyrirtækis

Nafn fyrirtækis

Nafn fyrirtækis

Myndin er dæmi um framsetningu á styrktarsíðu vefsins sem er í vinnslu

Vill þitt fyrirtæki vera bakhjarl Eystrahorns? Hafðu samband á eystrahorn@eystrahorn.is Stuðningur við Eystrahorn veitir bakhjörlum ekki áhrif á ritstjórn eða efnisval miðilsins

EYSTRAHORN

3


SVEITARFÉLAGIÐ HORNAFJÖRÐUR Í LANDSLEIKUNUM Um miðjan september fékk Þorkell Ragnar Grétarsson skilaboð frá kunningja sínum á RÚV um hvort hann vildi ekki taka þátt í nýjum skemmtiþætti sem færi af stað í haust, og helst velja tvo skemmtilega einstaklinga með sér í það. Til að byrja með var hann ekki alveg til í að taka þetta verkefni að sér, enda mikið að gera hjá honum og bað hann frekar um að heyrt væri í vinkonu sinni, Önnu Birnu Elvarsdóttur, sem er mikil áhugakona um spurningaþætti og keppti m.a. í Gettu Betur og Útsvari á sínum tíma. Kunningi Þorkels gafst þó ekki upp og endaði þetta þannig að úr varð lið Hornafjarðar sem samanstendur af Þorkeli, Björgu Blöndal og Önnu Birnu, og munu þau taka þátt í fyrstu seríu Landsleikanna, sem eru sýndir á RÚV á laugardagskvöldum. Liðið hefur síðan þá horft á þættina til að undirbúa sig og byrjað að fylgjast meira með fréttum en vanalega, enda byggjast margar spurningarnar á atburðum líðandi stundar. Segist liðið ekki vera neitt stressað fyrir úrslitunum, enda snúast þættirnir fyrst og fremst um að hafa gaman. Anna Birna, Björg og Þorkell munu þó auðvitað gera sitt allra besta og vonast til að fólkið hvetji þau heima úr sófanum.

4

EYSTRAHORN

Björg, Anna Birna og Þorkell Ragnar skipa lið Hornafjarðar í skemmtiþættinum Landsleikarnir

Þátturinn verður í beinni útsendingu á RÚV, laugardaginn 7. nóvember klukkan 19:45. Það verður einnig sameiginlegt áhorfspartý á Hafinu og eru öll velkomin þangað!

Ef þið viljið mæta á staðinn og hvetja liðið í persónu þá er einnig hægt að bóka sæti í sal með því að senda tölvupóst á landsleikarnir@ruv.is


Komdu í Hoffell Líttu við og njóttu í einstakri náttúru. Opið alla daga til og með 15. nóvember kl. 12-21. Verð er 4.500 kr. fyrir fullorðna (12 ára og eldri) og 900 kr. fyrir börn (2-11 ára). Við tökum vel á móti þér!

glacierworld.is EYSTRAHORN

5


FJÖR Í FAS Aðsend grein: Guðjón Ragnar Jónasson, skólameistari FAS

Skólaárið hefur farið vel af stað í FAS þetta haustið. Nemendur eru kröftugir og skólabragur hefur að mínu mati verið með miklum ágætum. Hádegið í FAS er ljúf samverustund í skólanum og þar slær skólahjartað taktfast. Síðan í haust hafa tíundu bekkingar snætt hádegisverð í Nýheimum með nemendum FAS. Það kemur til vegna þrengsla í mötuneyti grunnskólans en einnig er það liður í vilja skólayfirvalda til að tengja skólastigin betur saman og byggja trausta brú frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla. Félagslífið blómstrar nú, Jóhann Bergur kennari í FAS og Nejra verkefnastjóri HeimaHafnar hafa verið fengin til að aðstoða nemendafélag FAS við að skipuleggja félagslífið með krökkunum og viðburðir hafa verið mýmargir. Meðal viðburða sem hafa verið haldnir eru ískvöld, bílafeluleikur og kahootkeppnir en einnig hafa þau verið dugleg að nýta íþróttahúsið og Þrykkjuna á fimmtudögum og haldið marga góða viðburði þar. Stefnt er að því að efla félagslífið enn meira, vera með geislaklukk (lasertag) og flóttarými (escape room) að ógleymdu jólaballi. Skólameistarann hefur lengi dreymt um að halda kótelettukvöld kynslóðanna og biðlar því til fyrirtækja og stofnana um hráefni í veisluna. Öllum ágóðanum er varið til að efla félagslífið í FAS. Gaman væri að halda þennan viðburð þegar kemur fram á annan mánuð vetrar, ýli, en þá er einungis mánuður uns mörsugur hefst sem er fornt heiti yfir síðasta mánuð ársins. Mörsugur er þriðji mánuður vetrar samkvæmt gamla norræna tímatalinu. Hann hefst alltaf á miðvikudegi í níundu viku vetrar á tímabilinu 20. til 27. desember. Gísli Jónsson, íslenskufræðingur, hélt því fram að mörsugur væri sá mánuður sem sýgur mörinn, „ekki einasta úr skepnunum, heldur nánast öllu sem lífsanda dregur.” Þess vegna er vel við hæfi að efna til kótilettuveislu í svartasta skammdeginu.

6

EYSTRAHORN

Nemendur FAS á Nýtorgi í Nýheimum

Foreldrafélag FAS í samvinnu við Nemendafélag skólans áformar því flott kótelettukvöld í Nýheimum þann 26. nóvember. Staðnemum jafnt sem fjarnemum hefur fjölgað á þessu skólaári í FAS. Það er mikilvægt að skólinn bjóði upp á kröftugt staðnám enda leggjum við áherslu á mikilvægi þess að skólinn sé traust menntastofnun í héraði og undirbúi nemendur undir frekara nám. Lykilatriðið í þeim efnum er öflugur skólabragur og þannig undirbúum við nemendur undir lífið sjálft og framtíðarstörf. Markmið okkar er ætíð að koma öllum nemendum til nokkurs þroska. Á næsta ári ætlum við að reyna að efla iðnnámið okkar og eigum í samtali við sveitarfélagið og atvinnulífið um skipulag þess. Við erum þess fullviss að í sameiningu náum við heilum vagni heim að aka. Ég vil skila þakklæti til íbúa sveitarfélagsins fyrir þann mikla hlýhug

Nejra og Jóhann Bergur

sem samfélagið hefur sýnt skólanum. Til eflingar verknámi og uppbyggingu verknámsaðstöðu fengum við góða styrki á haustmánuðum frá Kiwanisklúbbnum Ósi, Hirðingjunum og sveitarfélaginu. Ég finn fyrir deiglu hér á Hornafirði. Fólki þykir vænt um skólana sína og eftir að hafa búið hér í rúmt ár finn ég sóknarhug hjá Hornfirðingum og nærsveitungum. Hér er næg atvinna og tækifærin mýmörg.


Kótilettukvöld kynslóðanna

FAS, nemendur og foreldrafélagið bjóða til veislu fimmtudaginn 26. nóvember í ýheimum Lambakótilettur með klassísku meðlæti.

Húsið opnað kl. .00 · orðhald kl. 9.00 Veislustjóri er Albert Eymundsson

5.999 kr. á ann Miðasala hjá nemendum FAS For antanir: gudjon@fas.is Allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda FAS.

22. nóv. kl. 11:00

Sunnudagaskóli

22. nóv. kl. 14:00

Hátíðarmessa í Bjarnaneskirkju í tilefni 50 ára vígsluafmælis

29. nóv. kl. 11:00

Jólaball Hafnarkirkju

29. nóv. Aðventustund og kaffiveitingar kl. 20:00 í Bjarnaneskirkju 30. nóv. kl. 13:00

Samverustund með eldri borgurum í Hafnarkirkju

Verið velkomin til kirkju Sjá nánar á Facebook þegar nær dregur Birt með fyrirvara um breytingar

Jólamarakaður á

AÐVENNTUHÁTÍÐ SVEITARFÉLAGSINS HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á AÐ SELJA HANDVERK ÞITT Á JÓLAMARKAÐI Á AÐVENTUHÁTÍÐ SVEITARFÉLAGSINS? VINSAMLEGAST SKRÁIÐ ÞÁTTTÖKU FYRIR KLUKKAN 12:00 MÁNUDAGINN 23. NÓVEMBER Á NETFANGIÐ SANDRA@HORNAFJORDUR.IS BÁSINN KOSTAR 2.000KR OG ER U.Þ.B. HÁLFT ÞORRABLÓTSBORÐ AÐ STÆRÐ (LÖNGU BORÐIN)

LAUGARDAGUR 28 NÓVEMBER

14:00 - 17:00

EYSTRAHORN

7


LIONSKLÚBBUR HORNAFJARÐAR 60 ÁRA Aðsend grein: Hannes Ingi Jónsson, ritari Lionsklúbbs Hornafjarðar

SEX ÁRATUGIR AF SAMHUG, VINÁTTU OG ÞJÓNUSTU VIÐ SAMFÉLAGIÐ

Þann 9. nóvember næstkomandi fagnar Lionsklúbbur Hornafjarðar merkum tímamótum þegar 60 ár verða liðin frá stofnun hans árið 1966. Í sex áratugi hefur klúbburinn verið Öræfaferð klúbbsins. Skeiðará í hlaupi. F. v. Einar Hálfdánarson, Jens Ólafsson, Lovísa mikilvægur þátttakandi í Gunnarsdóttir, Arngrímur Gíslason, Björg Svavarsdóttir, Haukur Þorvaldsson, Ingvar Þórðarson, Kristján Gústafsson, Hildigerður Skaftadóttir, Unnsteinn Guðmundsson, Sólrún samfélaginu á Hornafirði Einarsdóttir, Gróa Guðjónsdóttir, Hákon Valdimarsson, Margrét Gísladóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson, bílstjórinn Viðar Þorbjörnsson og lagt sitt af mörkum var formlega lýst yfir stofnun Lionsklúbbs Ekki létu menn þar við sitja heldur var til fjölmargra góðra Hornafjarðar og stofnfélagar undirrituðu einnig farið í stuttan humartúr á Lyngey málefna. stofnskrá klúbbsins. SF 61. Þetta var auðvitað fyrir daga Saga klúbbsins er saga samhentrar félagsstarfsemi, óeigingjarnrar sjálfboðavinnu, vináttu og ekki síst einstaklingsframtaks sem hefur skilað sér í betra samfélagi fyrir okkur öll.

UPPHAFIÐ OG FYRSTU STARFSÁRIN

Fljótlega kom í ljós að verkefnin voru næg fyrir hinn nýstofnaða klúbb. Fundir voru líflegir og félagar reyndust bæði hugmyndaríkir og áhugasamir um að láta gott af sér leiða. Fjölmargar tillögur komu fram um verkefni sem gætu orðið samfélaginu til hagsbóta. Þar má meðal annars nefna varnir gegn landbroti við Óslandstjörn, hreinsunarferðir um bæinn, skólamál og heilsugæslumál, svo fátt eitt sé nefnt.

Lionsklúbbur Hornafjarðar var stofnaður 9. nóvember 1966 og var móðurklúbbur hans Lionsklúbburinn Njörður í Reykjavík. Skráðir stofnfélagar voru 29 talsins og var fyrsta stjórn klúbbsins þannig skipuð að Skarphéðinn Pétursson sóknarprestur var formaður, Óskar Helgason símstöðvarstjóri ritari og Hermann Hansson, aðstoðarmaður kaupfélagsstjóra, gjaldkeri.

Fyrsta verkefni klúbbsins var að taka að sér frágang lóðarinnar við Hafnarkirkju, sem þá hafði nýlega verið vígð. En góð verkefni kosta sitt og því varð fljótlega ljóst að afla þyrfti fjár til að klúbburinn gæti látið til sín taka.

Stofnskrárhátíð klúbbsins var haldin laugardaginn 4. nóvember 1967. Hátíðin hófst með helgistund í Hafnarkirkju þar sem saman komu Lionsfélagar, makar þeirra og gestir, meðal annars frá móðurklúbbnum Nirði í Reykjavík. Að helgistund lokinni var haldið á Hótel Höfn þar sem hátíðardagskráin hélt áfram. Þar

Hugmyndaflugið lét ekki á sér standa þegar kom að fjáröflun. Meðal annars efndu Lionsfélagar til listaverkauppboðs þar sem seld voru verk sem þeir höfðu sjálfir skapað. Einnig brugðu félagar sér á handfæraveiðar á Sigurði Ólafssyni SF 44. Handsnúnum rúllum var þá raðað meðfram síðu bátsins og aflaðist ágætlega.

8

EYSTRAHORN

SAMFÉLAGSVERKEFNI

kvótakerfisins og slíkar fjáröflunarferðir væru vart framkvæmanlegar með sama hætti í dag! Þessar sögur lýsa vel þeim krafti og útsjónarsemi sem einkennt hefur starf klúbbsins frá upphafi. Þegar viljinn er fyrir hendi og samhentur hópur tekur höndum saman er ýmislegt hægt. Árangur af fjáröflunum og sjálfboðastarfi klúbbsins hefur víða skilað sér í samfélaginu. Má þar meðal annars nefna stuðning við Heilsugæslustöðina, Hjúkrunarheimilið og fjölmörg önnur verkefni sem hafa komið íbúum Hornafjarðar til góða. Þegar klúbburinn fagnaði 40 ára afmæli sínu var sett upp glæsileg sögusýning í Pakkhúsinu þar sem starfsemi hans í gegnum árin var gerð góð skil. Af því tilefni var einnig haldið veglegt afmælishóf.

ÞORGEIRSLUNDUR Eitt af þeim verkefnum sem Lionsklúbbur Hornafjarðar hefur sinnt í gegnum tíðina er skógrækt við innkomuna í bæinn. Lundurinn hefur hlotið nafnið Þorgeirslundur til heiðurs Þorgeiri Kristjánssyni, látnum Lionsfélaga sem var


einstaklega skemmtilegur, úrræðagóður og hugmyndaríkur maður. Af Þorgeiri eru til margar skemmtilegar sögur. Eitt sinn tilkynnti hann félögum sínum að honum hefði tekist að útvega bæði sláttuvél og áburðardreifara, og það meira að segja í einu og sama tækinu! Þegar betur var að gáð reyndust þetta vera hestar sem Þorgeir hafði einfaldlega sett á beit í lundinn. Þeir sáu bæði um að halda grasinu niðri og bera á svæðið með sínum eigin hætti. Ekki voru allir félagar jafnhrifnir af þessari hugvitsamlegu lausn, en uppátækið er enn ein af þeim sögum sem lifa áfram innan klúbbsins. Fyrir um tíu árum settu Lionsfélagar einnig upp upplýsingaskilti í lundinum. Þau hafa mikið sögulegt gildi, enda var á þessu svæði umfangsmikil braggabyggð á stríðsárunum. Þorgeirslundur er því ekki aðeins fallegt útivistarsvæði heldur einnig staður sem varðveitir hluta af sögu byggðarlagsins.

FÉLAGSSKAPURINN Það eru fyrst og fremst félagarnir sjálfir sem hafa gert Lionsklúbb Hornafjarðar að því sem hann er í dag. Í gegnum árin hafa fjölmargir einstaklingar lagt fram ómælda vinnu, tíma og krafta í þágu klúbbsins og samfélagsins. Af þeim 29 félögum sem stóðu að stofnun klúbbsins er einn enn starfandi í honum, Unnsteinn Guðmundsson. Unnsteinn hefur með einstakri elju, dugnaði og myndarskap verið einn af máttarstólpum klúbbsins í gegnum árin. Þar hefur hann notið ómetanlegs stuðnings eiginkonu sinnar, Hildigerðar Skaftadóttur. Unnsteinn hefur ávallt verið fremstur í flokki þegar eitthvað þarf að gera og er öðrum félögum góð fyrirmynd. Það er ómetanlegt fyrir félagsskap sem þennan að hafa innan sinna raða einstakling sem hefur fylgt honum allt frá upphafi og varðveitt sögu hans, hefðir og félagsanda.

FJÁRÖFLUN OG LÍKNARSTARF Á síðustu árum hafa helstu fjáröflunarverkefni klúbbsins verið hin árlega sviðaveisla, útgáfa auglýsingadagatals og kútmagakvöld, auk ýmissa tilfallandi verkefna.

Kútmagagerð í Ajtel. F.v Jón Áki, Björn Jón, Sverrir, Friðrik Jónas, Steinþór og Unnsteinn

Þessir viðburðir hafa ekki aðeins skilað fjármunum til góðra málefna heldur einnig skapað skemmtilegar samverustundir og styrkt tengsl klúbbsins við samfélagið. Frá upphafi hefur það verið eitt helsta leiðarljós Lionsklúbbs Hornafjarðar að styðja við líknar- og samfélagsverkefni í heimabyggð. Verkefnin eru orðin fjölmörg á þessum 60 árum og hafa með einum eða öðrum hætti snert líf margra íbúa. Í áratugi hefur klúbburinn einnig séð um að setja upp jólatré við Hafnarkirkju. Sú hefð er orðin fastur liður í jólaundirbúningi bæjarins og fallegt dæmi um hvernig jafnvel einföld verkefni geta skapað gleði og hlýju í samfélaginu. Starf klúbbsins hefur einnig náð út fyrir Hornafjörð. Lionsklúbbur Hornafjarðar hefur verið móðurklúbbur þriggja annarra Lionsklúbba, Lionsklúbbs Djúpavogs, Lionsklúbbsins Hænis í Nesjum og kvennaLionsklúbbsins Kolgrímu á Höfn. Þannig hefur klúbburinn ekki aðeins unnið að góðum málefnum á eigin starfssvæði heldur einnig átt þátt í að efla Lionshreyfinguna og sjálfboðastarf á öðrum stöðum.

FAGNAÐ Í PÓLLANDI Þessi merku tímamót verða meðal annars haldin hátíðleg með afmælisferð til Gdańsk í Póllandi dagana 5.–9. nóvember. Í ferðina fara rúmlega 30 manns, Lionsfélagar ásamt mökum og öðrum samferðamönnum. Ferðin verður án efa kærkomið tækifæri til að fagna þessum merka áfanga, rifja upp góðar minningar og styrkja enn frekar þann góða félagsanda sem einkennt hefur klúbbinn í gegnum árin. Í

dag

eru

félagar

Hornafjarðar 23 talsins. Núverandi stjórn skipa Skúli Ingólfsson formaður, Hannes Ingi Jónsson ritari og Grétar Smári Sigursteinsson gjaldkeri.

HORFT TIL FRAMTÍÐAR Þótt margt hafi breyst á þeim 60 árum sem liðin eru frá stofnun Lionsklúbbs Hornafjarðar hefur grunn hugsjónin staðið óhögguð: að láta gott af sér leiða og leggja samfélaginu lið. Verkefnin hafa tekið breytingum í takt við tímann, en þörfin fyrir samhug, hjálpsemi og öflugt sjálfboðastarf er engu minni í dag en hún var árið 1966. Saga klúbbsins sýnir glögglega hversu miklu samhentur hópur fólks getur áorkað þegar allir leggjast á eitt. Á bak við hvert verkefni eru félagar sem hafa gefið af tíma sínum og kröftum, oft án þess að sækjast eftir nokkurri viðurkenningu. Á þessum tímamótum er því full ástæða til að líta stolt um öxl, minnast þeirra sem lögðu grunninn að starfinu og þakka öllum þeim sem hafa komið að því í gegnum tíðina. Ekki má heldur gleyma mökum og fjölskyldum Lionsfélaga, sem hafa í gegnum árin sýnt starfinu skilning og stuðning og oft lagt hönd á plóg við hin ýmsu verkefni. Með þakklæti fyrir liðin 60 ár og bjartsýni fyrir komandi ár heldur Lionsklúbbur Hornafjarðar áfram að starfa í anda einkunnarorða Lionshreyfingarinnar: „Við leggjum lið.“ Fyrir hönd Lionsklúbbs Hornafjarðar Hannes Ingi Jónsson, ritari

Lionsklúbbs EYSTRAHORN

9


FULLT HÚS Á LA PIETÀ Greinarhöfundur: Tjörvi Óskarsson

Salurinn í Nýheimum var stappfullur föstudagskvöldið 2. október þegar heimildarmyndin La Pietà, eða Það sem hverfur, var sýnd. Hornfirðingar fjölmenntu til að sjá myndina, sem fjallar um systkinin á Kvískerjum og einstök tengsl þeirra við náttúruna og jökulinn. Sýningin var haldin í tengslum við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF. Aðstandendur myndarinnar vildu einnig sýna hana hér eystra, enda höfðu fjölmargir Hornfirðingar aðstoðað við gerð hennar. Meðal þeirra voru heimamenn með sterk tengsl við Kvísker og fólkið sem þar bjó.

Ólafur framleiðandi myndarinnar ásamt Pepe og Rafa leikstjórum myndarinnar

Menningarmiðstöð Hornafjarðar annaðist sýninguna fyrir aðstandendur myndarinnar. Leikstjórarnir Pepe Andreu og Rafa Molés voru viðstaddir ásamt Ólafi Rögnvaldssyni, einum framleiðenda myndarinnar. Í myndinni snýr ljósmyndarinn Ragnar Axelsson aftur að Kvískerjum. Minningar, ljósmyndir og rödd Flosa Björnssonar veita innsýn í líf systkinanna á bænum og tengsl þeirra við náttúruna og jökulinn, sem þau fylgdust með alla sína ævi.

Hreinsibúnaður og vélar

Að sýningu lokinni fóru fram umræður og gestir fengu tækifæri til að spyrja leikstjórana út í myndina. Óhætt er að segja að það hafi verið magnað augnablik þegar allur salurinn söng saman „Sofðu unga ástin mín“ fyrir leikstjórana. Fleiri tækifæri gefast brátt til að kynnast sögu Kvískerja. Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu vinnur nú að sýningu um Kvískerjafjölskylduna í Gömlubúð. Áætlað er að opna hana 14. mars 2027, þegar öld verður liðin frá fæðingu Hálfdáns Björnssonar frá Kvískerjum. Þangað til hvetjum við lesendur til að hlusta á hlaðvarp Gömlubúðar, þar sem saga fjölskyldunnar hefur verið til umfjöllunar í nokkrum þáttum. Meðal viðmælenda eru Gísli Jónsson frá Hnappavöllum, Hanna Dís Whitehead byggðasafnsvörður og Snævarr Guðmundsson náttúrufræðingur. Þættina má finna á helstu hlaðvarpsveitum, meðal annars Spotify og Apple Podcasts.

K Háþrýstidælur – mest 180 bör

HD Háþrýstidælur – mest 250 bör

HDS Háþrýstidælur/Hitadælur – mest 210 bör & vatnshiti 155°C

PGG Rafstöðvar – 1 & 3 fasa, 2200W-7200W

NT Ryksugur – Stærð 22-65 ltr & verksmiðju rykugur

Brunndælur – Ýmsar stærðir

Rafver er stoltur umboðsog þjónustuaðili Kärcher á Íslandi í 42 ár!

Rafver • Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is

10 EYSTRAHORN


FLEIRI NEMENDUR OG FJÖLBREYTT VERKEFNI Aðsend grein: Nýheimar Þekkingarsetur

HeimaHöfn heldur áfram að vaxa og dafna og ýmislegt spennandi er á döfinni. Meðal helstu tíðinda er að í fyrsta sinn er unnið með nemendum í 7., 8. og 9. bekk Grunnskóla Hornafjarðar, samhliða áframhaldandi starfi með nemendum 10. bekkjar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. HeimaHöfn er eitt af áhersluverkefnum SASS 2026– 2027 og hefur sá stuðningur gert verkefninu kleift að ná til fleiri nemenda en áður. Á

þessu skólaári er nýsköpun og frumkvöðlastarf í brennidepli. Upphafsviðburður annarinnar var fyrirlestur Arnars Sigurðssonar frá samfélagslegu tilraunastofunni Austan mána. Arnar kynnti nýsköpun fyrir nemendum FAS og 10. bekkjar og leiddi hópvinnu þar sem nærsamfélagið var skoðað frá ólíkum sjónarhornum. Fulltrúar HeimaHafnar hafa verið á ferðinni í skólunum það sem af er hausti. Nemendur 7., 8. og 9. bekkjar fengu sína fyrstu kynningu á HeimaHöfn og tóku þátt í umræðum og verkefnavinnu um málefni nærsamfélagsins. Á dögunum hittum við nemendur 10. bekkjar og ræddum saman um mikilvægi góðra samskipta. Undir lok október spreyttu nemendur 8. og 9. bekkjar sig á viðburðahaldi með því að þróa hugmynd að samfélagsviðburði. Meira um það síðar!

markmiðasetningu fyrir nemendur 10. bekkjar og um kynjaðan vinnumarkað fyrir 9. bekk auk þess sem nemendur FAS fá kynningu í nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Fyrir annarlok verður upplýsingum um næstu skref að loknum grunn- og framhaldsskóla miðlað til verðandi útskriftarnema. Við hvetjum öll áhugasöm til að fylgjast með starfinu á vefnum www.heimahofn.is og samfélagsmiðlum HeimaHafnar. Að lokum viljum við þakka kærlega öllum þeim sem komið hafa að starfinu í haust. Nemendur og starfsfólk skólanna, starfsfólk Fab Lab, bændur, starfsfólk Landbúnaðarháskólans, fyrirlesarar og fjölmargir aðrir hafa lagt sitt af mörkum til þess fjölbreytta starfs sem fram hefur farið á vegum HeimaHafnar í haust. Nejra kynnti HeimaHöfn fyrir nemendum í 7., 8. og 9. bekk

Síðasta vika september var tileinkuð landbúnaði og var sveitaferð framhaldsskólanema hápunkturinn. Jafnframt miðluðu bændur ýmsu efni á samfélagsmiðlum HeimaHafnar, sem gaf skemmtilega innsýn í líf og störf í landbúnaði. Nemendur FAS mættu galvösk í Vöruhúsið um miðjan október og komu mörgum flottum hugmyndum í framkvæmd. Heimsóknin gaf þátttakendum tækifæri til að kynnast glæsilegri aðstöðu Vöruhússins til skapandi vinnu. Haustönnin er nú um það bil hálfnuð og enn er nóg framundan. Á dagskrá eru meðal annars fræðsla um

Framhaldsskólanemar fóru í sveitaferð

EYSTRAHORN

11


ÞETTA ER MITT LANDSLAG Aðsend grein: Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Hanna Dís Whitehead

Á sýningu Hallgerðar Hallgrímsdóttur sem verður opnuð í Svavarssafni föstudaginn 6. nóvember kl 17:00 mætast minningar, staðir og tíminn. Hallgerður ólst að hluta upp á Höfn og snýr nú aftur með myndavélina að landslagi sem mótaði fyrstu sýn hennar á heiminn. Í verkunum verður fortíðin ekki endursköpuð heldur rannsökuð; staðirnir eru kunnuglegir en um leið breyttir, minningarnar skýrar en samt óáreiðanlegar. Hallgerður ljósmyndari

Í tilefni sýningarinnar ræddi Hanna Dís Whitehead sýningastjóri sýningarinnar við Hallgerði um Höfn, ljósmyndunina, minningarnar og leitina að því sem aðeins lifir áfram í ímyndunaraflinu. Hvað varð til þess að þú valdir að vinna með Höfn og nágrenni sem viðfangsefni? Það er ekkert sem ég veit skemmtilegra en að fá að eigra um íslenskan bæ í friði með myndavélarnar mínar. Ég held að uppvöxtur minn á Höfn liggi þar að baki, að hann hafi mótað fagurfræði mína. Ég nota ljósmyndun til að safna augnablikum, stöðum og svipum fólks, mitt einstaka steinasafn. Nú langaði mig að sjá hvað myndi verða ef ég afmarkaði steinatýnsluna við staðinn sem kveikti þennan áhuga hjá mér, mótaði hvernig ég er.

Hve stórkostleg fjallasýnin er frá götunni fyrir utan gamla húsið mitt í Hlíðartúni og skriðjöklaútsýnið frá göngustígnum við sjávarsíðuna en þetta er ekki eitthvað sem ég man sérlega eftir að hafa veitt eftirtekt sem barn. Svo ég velti fyrir mér hvort ég hafi meira verið að horfa niður á nærgróðurinn en að beina augum að sjóndeildarhringnum.

og minningar eru oft nátengdar, hvort sem við notum ljósmyndir til að muna eða munum vegna ljósmyndarinnar. Ég nota eina gamla mynd í verkið, sem Baldur (Kristjánsson) hefur tekið af okkur mömmu (Halldóru Gunnarsdóttur) aftanfrá og skugginn hans kemur inn á myndina svo við erum þar öll þrú. Mér finnst ég muna eftir þessum degi en það væri þá eflaust vegna ljósmyndanna sem eru til. En aðallega notaði ég minningarnar til að ná réttu stemningunni, það felst lifuð vitneskja í því að hafa alist hérna upp. Ég þekki mig svo vel hér, þetta er mitt landslag.

Hvaða hlutverki gegna minningar í ljósmyndavinnu þinni?

Hvernig þróaðist verkið frá myndatöku yfir í sýningu?

Ós er frumraun mín í að vinna beinlínis með minningar en ljósmyndun

Í byrjun var planið frekar óljóst en mig langaði til að taka mannamyndir í bland

Hins vegar er það landslagið sem slær mig.

Þegar þú kemur aftur á stað sem tengist bernsku þinni, hvað grípur augað fyrst? Annars vegar dregst ég að görðum fólks. Við börnin í níunni vörðum svo miklum tíma í að þvælast um bæinn og garðarnir ásamt hólum og tjörnum, innkeyrslum og götum voru okkar leiksvæði. Húsagarðar eru svo áhugavert rými, á sama tíma einka og fyrir allra augum, og fyrir barninu mér voru þeir líka almenningseign. Mest heillast ég af því hvernig fólk notar og skreytir þá, hvernig hér tíðkast að nota hvalbein, akkeri, hreindýrahorn og steina. En allir þessir hlutir segja okkur eitthvað um sérstöðu Hafnar og náttúruna umhverfis bæinn. Ljósmyndir eftir Hallgerði sem verða á sýningunni

12 EYSTRAHORN


við landslag og götumyndir úr bænum. Því auglýsti ég hér í Eystrahorni eftir fólki til að sitja fyrir og fékk frábær viðbrögð en ég hafði einnig samband að fyrra bragði. Svo sumt fólkið í verkinu þekki ég en aðra ekki neitt, nema bara eftir þennan tíma sem við dvöldum saman í myndatökunni. Stærsta verkefnið var að velja úr myndunum en það er svo merkilegt hvað gerist þegar nokkrar myndir eru hengdar hlið við hlið að ósjálfrátt myndast tenging þar á milli. Hvernig verur að sýna þessi verk á Hornafirði, á stað sem tengist efniviðnum svo sterklega? Það er dálítið sérstakt að sumir gestirnir hafa kannski þekkt þennan stað allt sitt líf en aðrir eru að koma í fyrsta sinn. Áhorfendur munu því bæði þekkja bæinn betur og verr en ég og vonandi munu íbúar og ferðamenn deila því með mér sem þau sjá í myndunum. Í mínum huga er hér mjúk og djúp, lagskipt fegurð og ég vona að fólk finni fyrir hinum mörgu lögum sem samfélagið hér ber með sér. Svavarssafn er opið alla virka daga frá kl 9-15. Hægt er að hafa samband við starfsfólk Menningarmiðstöðvar um heimsóknir utan þess tíma.

Hallgerður og Halldóra móðir hennar

EYSTRAHORN

13


What could we do better? Over the past two issues, we have looked at the waste services already available in rural areas and how we can sort and manage our waste better.

Now we want to look ahead. There are several ways waste services in rural areas could be improved. Different solutions come with different costs and practical requirements. Before deciding what to do next, we want to understand which improvements would be most useful to residents.

More special collection events

Fleiri sérstakir söfnunardagar

We already organise special collections for certain types of waste. One option could be to increase the number of collection events for waste such as:

Nú þegar eru skipulagðar sérstakar safnanir fyrir ákveðna úrgangsflokka frá heimilum. Einn möguleiki væri að fjölga söfnunardögum, til dæmis fyrir:

Electronics · Hazardous waste · Tyres

Raftæki · Spilliefni · Hjólbarða

This could make disposal easier without requiring permanent new facilities.

Þannig væri hægt að auðvelda íbúum að losa sig við slíkan úrgang án þess að koma þurfi upp nýrri varanlegri aðstöðu.

A local recycling station

Support for home composting

Food waste in rural areas is currently managed at home or disposed of with mixed waste. One possibility is to support more home composting, for example through a municipal subsidy towards the purchase of a household composting machine. This could help households manage food waste at home and reduce the amount of food waste disposed of with mixed waste.

Móttökustöð með fleiri úrgangsflokkum

Another possibility is a larger local recycling station with more waste streams available in one place. Such a facility could provide more options locally, but would also require more investment and ongoing operation, including emptying, cleaning and monitoring.

Annar möguleiki væri stærri móttökustöð þar sem hægt væri að skila fleiri tegundum úrgangs á einum stað. Slík aðstaða gæti veitt íbúum fleiri möguleika nær heimili en myndi jafnframt kalla á meiri fjárfestingu og reglulegan rekstur, þar á meðal tæmingu, þrif og eftirlit.

Have your say! What would help you most?

TAKTU ÞÁTT Í KÖNNUNINNI TAKE THE SURVEY

Before deciding whether services should change, we want to understand: What waste is most difficult for your household to deal with? Which improvements would actually make a difference to you? Are there other solutions we should consider? Help us decide what should be prioritised. The survey result will be published.

14 EYSTRAHORN

Íslenska · English · Polski 5 mínútur · 5 minutes


Sorpþjónusta í dreifbýli · 3/3

Hvað getum við gert betur? Í síðustu tveimur tölublöðum höfum við fjallað um þá sorpþjónustu sem nú þegar er í boði í dreifbýli og hvernig við getum flokkað og meðhöndlað úrganginn okkar betur.

Nú viljum við horfa til framtíðar. Ýmsar leiðir koma til greina til að bæta sorpþjónustu í dreifbýli. Mismunandi lausnir hafa í för með sér ólíkan kostnað og mismunandi kröfur varðandi framkvæmd og rekstur. Áður en ákveðið verður hvert næsta skref á að vera viljum við því vita hvað myndi raunverulega nýtast íbúum best.

Stuðningur við heimajarðgerð

Grenndarstöð fyrir endurvinnsluefni

Local recycling containers

Matarúrgangur í dreifbýli er nú almennt meðhöndlaður heima eða settur með blönduðum úrgangi. Einn möguleiki væri að styðja betur við heimajarðgerð, til dæmis með styrk frá sveitarfélaginu til kaupa á jarðgerðarvél fyrir heimili. Þetta gæti hjálpað heimilum að meðhöndla matarúrgang heima og minnkað það magn matarúrgangs sem fer í blandaðan úrgang.

Support for bulky waste

Would it help to have somewhere closer to home to take certain recyclable materials? Small recycling points could be provided at selected locations for materials such as:

Myndi það hjálpa að geta skilað ákveðnum endurvinnsluefnum nær heimilinu? Hægt væri að koma upp minni grenndarstöðvum á völdum stöðum fyrir úrgangsflokka á borð við:

Glass · Metal · Beverage containers

Gler · Málma · Skilagjaldsskyldar umbúðir

This could reduce the need to travel to Höfn for these materials.

Þetta gæti dregið úr þörfinni á ferðum til Hafnar með þessa úrgangsflokka.

Stuðningur vegna fyrirferðarmikils úrgangs

Furniture, renovation waste and other bulky items can be difficult and costly to manage when you live far from the sorting centre. One possibility could be a voucher or discount scheme, allowing households to dispose of a limited amount of eligible bulky waste at the sorting centre free of charge or at a reduced cost.

Húsgögn, úrgangur vegna minni framkvæmda og annar fyrirferðarmikill úrgangur getur verið erfiður og kostnaðarsamur í meðhöndlun þegar langt er í móttöku- og flokkunarstöðina. Einn möguleiki væri ávísana- eða afsláttarkerfi, þar sem heimilum væri gert kleift að skila takmörkuðu magni af tilteknum fyrirferðarmiklum úrgangi á móttöku- og flokkunarstöðina án gjalds eða gegn lægra gjaldi.

Segðu þína skoðun Hvað myndi nýtast þér best? Áður en ákveðið verður hvort og hvernig þjónustunni verði breytt viljum við vita: Hvaða úrgang er erfiðast fyrir þitt heimili að losa sig við? Hvaða úrbætur myndu raunverulega nýtast þínu heimili? Eru aðrar lausnir sem við ættum að skoða? Hjálpaðu okkur að ákveða hvaða úrbætur ætti að setja í forgang. Samantekt á niðurstöðum könnunarinnar verður birt að henni lokinni.

EYSTRAHORN

15


UPPSKERUHÁTÍÐ KNATTSPYRNUDEILDAR SINDRA Aðsend grein: Knattspyrnudeild Sindra

Uppskeruhátíð Sindra var haldin í byrjun október. Í sumar var eingöngu keppt í karlaflokki hjá meistaraflokkum Sindra þar sem fækkað hefur í kvennaflokki og hópurinn því of lítill til að halda úti meistaraflokksliði kvenna. Knattspyrnudeildin réði nýjan þjálfara til Sindra um áramót, Björn Daníel Sverrisson sem var að taka sín fyrstu skref sem þjálfari en á að baki farsælan feril sem atvinnumaður erlendis og á Íslandi, nú síðast hjá FH í Bestu deildinni. Hjá Sindra höfum við verið í uppbyggingarferli þar sem áherslan hefur verið á að gefa ungum leikmönnum sem eru uppaldir hjá Sindra tækifæri. Í ár fengum við einnig til okkar nokkra unga íslenska leikmenn sem vildu leika fyrir Sindra. Það tók liðið smá tíma að slípast saman enda fylgja nýjum þjálfara aðrar áherslur og það tekur alltaf smá tíma að koma nýju liði og nýju þjálfarateymi saman en Halldór Steinar Kristjánsson kom inn sem aðstoðarþjálfari ásamt því að Óli Jóns sá um markmannsþjálfun og Mariano sá um styrktar- og þolþjálfun liðsins. Árangur liðsins var góður en liðið endaði í 7. sæti í 3. deild, sigraði liðið til að mynda efstu lið deildarinnar. Spilað var á ungum leikmönnum ásamt því að Björn ákvað að spila með liðinu. Hópurinn er nær óbreyttur í vetur og því ástæða til að vera bjartsýn á framhaldið. Á lokahófinu voru nokkrir leikmenn

Hugi Jóhannnesson, Aðalsteinn Ómar Liljuson, Björn Daníel Sverrisson, Kári Steinn Jónsson, Kristinn Hallur Jónsson og Logi Freyr Gissurarson á uppskeruhátíðinni

heiðraðir fyrir góðan árangur. Það er hefð fyrir því að heiðra leikmenn fyrir að spila fyrsta leik sinn fyrir meistaraflokkinn og í ár voru það Alex Leví Gunnarsson, Aðalsteinn Ómar Liljuson, Björn Daníel Sverrisson, Kári Steinn Jónsson, Kristinn Hallur Jónsson og Logi Freyr Gissurarson. Besti liðsmaðurinn var Kjartan Jóhann Einarsson, mikilvægasti leikmaðurinn var Oscar Karol Jarosz og Jóhann Frans

Ólafsson var valinn valinn efnilegasti leikmaðurinn. Tveir leikmenn náðu því marki að spila 50 leiki fyrir Sindra og voru það Patrekur Máni Ingólfsson og Oscar Karol Jarosz. Sindramaður ársins var Mariano Flitcroft en hann hefur sinnt styrktar- og þolþjálfun fyrir knattspyrnudeildina í 6 ár. Hann hefur gegnt mikilvægu starfi í að halda leikmönnum í góðu leikformi og meiðslalausum. Mariano hefur jafnframt unnið fyrir aðrar deildir Sindra samhliða og unnið afar óeigingjarnt starf. Mariano hefur tekið ákvörðun um að skipta um starf og hefur störf hjá knattspyrnudeild Selfoss eftir áramót. Hans verður sárt saknað. Við viljum nota tækifærið og þakka okkar helstu styrktaraðilum fyrir frábært samstarf og öllum sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg.

Sindramaður ársins 2026 var Mariano Flitcroft. Hér er hann ásamt Steindóri og Birni Daníel

16 EYSTRAHORN


FÉLAG ELDRI HORNFIRDINGA

Almenningssamgöngur á landi á Austurlandi 2027-2028

ÞRIGGJA KVÖLDA

FÉLAGSVIST Fimmtudaga kl. 19:30

12.

nóvember

19.

nóvember

26.

nóvember

Spilað um verðlaun Verð: 1.500 kr. hvert kvöld Auglýst útboð Vegagerðin óskar eftir tilboðum í almenningssamgöngur á landi á Austurlandi 2027-2028. Þjónustuverkefninu er skipt í tvo hluta; annars vegar leiðir 91 og 93 og hins vegar leið 94. Leiðir 91 og 93: → Leið 91: Egilsstaðir – Reyðarfjörður – Egilsstaðir / Egilsstaðir – Neskaupstaður – Egilsstaðir → Leið 93: Seyðisfjörður – Egilsstaðir – Seyðisfjörður Leið 94: → Leið 94: Djúpivogur – Höfn – Djúpivogur / Höfn – Breiðdalsvík – Höfn Nánari upplýsingar er að finna á www.island.is/utbodsvefur

Allir velkomnir!

DANSIBALL ÍEkrubandið EKRU spilar

Sunnudaginn 8. nóvember kl. 15:00 í Ekru FYRIR ELDRI HORNFIRÐINGA

Smurþjónusta Almennar bílaviðgerðir Framrúðuskipti Tímareimar og blautreimar Blautreimar eru m.a. í mörgum Ford-bílum á borð við Transit og í bensínbílum frá Peugeot, Citroën og Opel.

FRÍ ÁSTANDSSKOÐUN

BLAUTREIMAR

Öllum smurþjónustum fylgir frí ástandsskoðun á bremsum og helstu slithlutum.

Óviss um hvort bíllinn sé með blautreim eða ástand hennar? Hafðu samband eða líttu við við athugum málið fyrir þig.

TÍMAPANTANIR OG FYRIRSPURNIR

478 2041 / 845 7759

palmifreyr@gmail.com

Bugðuleira 6 780 Höfn í Hornafirði EYSTRAHORN

17


VIÐBURÐARDAGATAL HVAÐ ER UM AÐ VERA? Föstudagur 6. nóvember

17:00 Opnun í Svavarssafni á sýningunni Ós. Hallgerður Hallgrímsdóttir 19:15 Bónusdeild karla, Sindri - Valur í Icelagoonhöllinni

Laugardagur 7. nóvember

11:00 Urban Sketchers hittast og teikna saman í Nýheimum 19:45 Áhorfspartý á Hafinu vegna þátttöku Hornafjarðar í Landsleikunum. Útsending hefst á RÚV kl. 19:45

Sunnudagur 8. nóvember

15:00 Dansiball í Ekru fyrir eldri Hornfirðinga. Ekrubandið spilar 15:40 2. deild karla, Máni - Fylkir í Icelagoonhöllinni 20:00 Félagsvist í Holti - annað kvöld af þremur, aðgangseyrir 1.500 kr

Fimmtudagur 12. nóvember

19:30 Félagsvist Félags eldri Hornfirðinga í Ekru - fyrsta kvöld af þremur, aðgangseyrir 1.500 kr 20:00 Félagsfundur FASK í sal Afls, Víkurbraut 4. Félagsmenn og áhugasamir velkomnir

Laugardagur 14. nóvember

16:00 Pop-Up á Verbúðarbarnum til kl. 18:00. Handgert á Íslandi: Signý BR design og Sárka og Josefine design - handgerð jólabók, jólapóstkort og jólamerkimiðar 19:00 Vetrargleði í Árnanesi - bjúgnahátíð. Verð 8.500 kr. Miðapantanir í síma 478 1550 eða arnanes@arnanes.is 19:30 Góðir gestir í Sjallanum - Guðrún Hafsteinsdóttir og Ingveldur Anna Sigurðardóttir

Sunnudagur 15. nóvember

17:00 Felix Bergsson skemmtir krökkunum í Gömlubúð til kl. 18:00 20:00 Félagsvist í Holti - þriðja kvöld af þremur, aðgangseyrir 1.500 kr 20:00 Rithöfundakvöld Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í Nýheimum til kl. 22:00

Fimmtudagur 19. nóvember

07:00 Aukablað 10. tbl Eystrahorns kemur út, skilafrestur fyrir efni og auglýsingar föstudaginn 13. nóvember 19:30 Félagsvist Félags eldri Hornfirðinga í Ekru - annað kvöld af þremur, aðgangseyrir 1.500 kr

Sunnudagur 22. nóvember

11:00 Urban Sketchers hittast og teikna saman í Ljósdís bakarí 11:00 Sunnudagaskóli í Hafnarkirkju 14:00 Hátíðarmessa í Bjarnaneskirkju í tilefni 50 ára vígsluafmælis

Miðvikudagur 25. nóvember

09:00 Ráðstefna á Hala um mikilvægi sjálfbærni til kl. 14:00. Skráning nauðsynleg info@glacieradventure.is 15:00 Bókaklúbbur á bókasafninu til kl. 16:00

Fimmtudagur 26. nóvember

19:00 Kótilettukvöld kynslóðanna í Nýheimum á vegum FAS. Húsið opnar kl. 18:00. Verð 5.999 kr. Miðasala hjá nemendum FAS og forpantanir á gudjon@fas.is 19:30 Félagsvist Félags eldri Hornfirðinga í Ekru — þriðja kvöld af þremur, aðgangseyrir 1.500 kr 19:30 Smátré-Gunnars - skreytingarkvöld á Verbúðarbarnum til kl. 21:30. Verð 4.900 kr. Skráning á hofn@icehotels.is 20:00 Bæjarmálafundur í Sjallanum

Laugardagur 28. nóvember

14:00 Aðventuhátíð sveitarfélagsins 17:00 Ljósin tendruð á jólatré bæjarins á miðsvæði

Sunnudagur 29. nóvember

11:00 Jólaball Hafnarkirkju 20:00 Aðventustund og kaffiveitingar í Bjarnaneskirkju

Mánudagur 30. nóvember

13:00 Samverustund með eldri borgurum í Hafnarkirkju

Fimmtudagur 3. desember

07:00 11. tbl Eystrahorns kemur út, skilafrestur fyrir efni og auglýsingar föstudaginn 27. nóvember 17:30 „Jólagestir Bjargar“ - Jólatónleikar söngnemenda Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu til heiðurs Björgvini Halldórssyni í Sindrabæ. Frítt inn, allir velkomnir

Föstudagur 4. desember

19:00 Samvera Félags eldri Hornfirðinga á Hótel Höfn. Skráning fyrir 27. nóvember á eirnyvals@gmail.com

Föstudagur 20. nóvember

19:00 Bónusdeild karla, Sindri - Njarðvík í Icelagoonhöllinni 21:00 Karlakvöld á Verbúðarbarnum til kl. 23:00. Vörur frá Chad grooming til sölu, rakari á staðnum og bjórkynning

Laugardagur 21. nóvember

21:00 Söngleikjasprengja Leikfélags Hornafjarðar í Sindrabæ. Húsið opnar kl. 20:00, opinn hljóðnemi kl. 22:00–00:00. 18 ára aldurstakmark

DÝRALÆKNAÞJÓNUSTA

Kæru dýraeigendur í Austur-Skaftafellssýslu og í Múlaþingi austur á Djúpavog Höfum tekið til starfa á svæðinu BÓKANIR · VITJANIR · NEYÐARTILVIK Almennar tímabókanir, vitjanir og neyðartilvik:

Agnes dýralæknir

837-5962

BÓLUSETNINGAR · FYRIRSPURNIR Pöntun á garnaveikibólusetningu ásetningslamba og almennar fyrirspurnir:

Harpa Ósk dýralæknir volustakkur@gmail.com

18 EYSTRAHORN

865-2781


NÓVEMBER FASTIR LIÐIR Mánudagar 10:00

Gönguferðir Félags eldri Hornfirðinga frá Ekru

Þriðjudagar

10:30 Krílakaffi á bókasafninu til kl. 12:00 15:00 Opið hús í Fab Lab Hornafirði í Vöruhúsinu til kl. 19:00 16:30 Æfing hjá Hlaupahópi Hornafjarðar - breytilegur upphafsstaður 17:00 Æfing Gleðigjafa í sal Ekru. Fleira söngfólk velkomið

Miðvikudagar

10:00 Gönguferðir Félags eldri Hornfirðinga frá Ekru 13:00 Prjónakaffi á bókasafninu til kl. 15:00 13:00 Handavinnuhorn í Ekrusal 20:50 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn

Heil og sæl Viltu gera eitthvað lítið og sætt með þetta lítilræði eins og Valla á Hvalnesi hefði sagt! Nú fara Gleðigjafar að hefja upp raust sína og það er alltaf pláss fyrir fleira söngfólk. Gleðigjafar æfa 1 sinni í viku, á þriðjudögum kl. 17:00 í sal Ekru. Ég lofa ekki upp í ermina þegar ég segi að þetta sé sérdeilis skemmtilegur hópur og fara allir glaðir beint í grautinn! Ekkert inntökupróf, bara að mæta. Fyrsta æfing var 3. nóv. og svo alla þriðjudaga kl. 17:00 Sjáumst! Kv. Gulla

Fimmtudagar

13:30 Hreyfing í vatni hjá eldri borgurum í Sundlaug Hafnar 15:00 Opið hús í Fab Lab Hornafirði í Vöruhúsinu til kl. 19:00 16:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl. 18:00 16:30 Opið í Hirðingjunum til kl. 18:30

Föstudagar

13:00 Kínaskák í Ekru. Leiðbeiningar á staðnum og kaffi á könnunni

Heyrnarþjónusta síðan 2007

534-9600 heyrn.is

Laugardagar

13:00 Prjónakaffi á Hótel Berjaya til kl. 15:00 13:00 Opið í Hirðingjunum til kl. 15:00 fyrsta laugardag hvers mánaðar 14:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl. 16:00 fyrsta laugardag hvers mánaðar

Sunnudagar

10:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn 13:00 Samkoma í Hvítasunnukirkjunni á Höfn 14:00 Bridgefélag Hornafjarðar spilar bridge í Ekru. Nýliðar velkomnir

Daglegar ferðir milli Hafnar og Reykjavíkur Sími: 470 8220

AFL hefur bætt tveimur íbúðum í Eirhöfða 7 í Reykjavík við orlofskosti f la si s Bókið á Mínum Síðum á www.asa.is EYSTRAHORN

19


SEXTÍU ÁR Í LIONS OG ER ENN AÐ Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Unnsteinn Guðmundsson var einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Hornafjarðar árið 1966. Hann er fæddur árið 1945 og var nýlega fluttur til Hafnar þegar hann ákvað að taka þátt í stofnun klúbbsins. Þá var hann aðeins 21 árs gamall, hafði þegar byggt sér hús og var orðinn tveggja barna faðir. „Ég var nánast barn!“ segir Unnsteinn þegar hann rifjar upp stofnun klúbbsins fyrir 60 árum. Hann var langyngstur stofnfélaganna en sá elsti var fæddur árið 1896. Í dag er Unnsteinn sá eini úr hópi stofnfélaganna sem enn starfar í Lionsklúbbi Hornafjarðar. Á þessum tíma sinnti Unnsteinn meðal annars lögreglustörfum á Höfn. Hann rifjar upp að í einni eftirlitsferðinni með Elíasi Jónssyni, betur þekktum sem Ella löggu, hafi talið borist að fyrirhugaðri stofnun Lionsklúbbs á staðnum. „Við Elías vorum í eftirlitsferð og vorum að ræða þetta. Ég fór svo að tala um þetta við Gerðu þegar ég kom heim og henni leist vel á þetta,“ rifjar Unnsteinn upp. Honum fannst spennandi að taka þátt í stofnun klúbbsins.

FORMLEGIR FUNDIR EN LÍKA MIKIL GLEÐI Unnsteinn minnist fyrstu starfsára klúbbsins með mikilli ánægju. Félagsstarfið var líflegt og fjölbreytt þótt fundirnir sjálfir væru formlegir.

Unnsteinn á heimili sínu á Fiskhól

kaupa á búnaði svo hann gæti hafið störf í heimabyggð. Fjáröflunin var ekki síður fjölbreytt. Meðal þess sem Unnsteinn minnist sérstaklega eru listaverkauppboð sem haldin voru tvisvar á vegum klúbbsins, árin 1972 og 1975. Hann hafði sjálfur frumkvæði að því að fá félagsmenn til að búa til listaverk sem síðan voru boðin upp.

Eitt þessara verka var eftir Pétur Sigurbjörnsson vélsmið. Verkið var síðar stækkað af Vélsmiðju Hornafjarðar og sett upp við Árnanesflugvöll árið 1994, í tilefni þess að 70 ár voru liðin frá Hnattfluginu. Þess má geta að Pétur var langafi Svavars Péturs Eysteinssonar, tónlistarmanns, sem flestir þekkja undir listamannsnafninu Prins Póló.

„Þetta voru bara alvöru fundir, allir fundir með fundarsköpum, allt formlegt“ segir hann og bætir við að sú hefð hafi haldist til dagsins í dag. Á fundunum var meðal annars rætt hvernig hægt væri að afla fjár og hverjir í samfélaginu gætu þurft á aðstoð að halda. Verkefnin voru af ýmsum toga. Unnsteinn rifjar til dæmis upp þegar klúbburinn gaf sjónvarpstæki á heimili þar sem slíkt tæki var ekki til staðar, á þeim tíma þegar sjónvarp var orðið algengt á íslenskum heimilum. Þá gaf klúbburinn einnig fjölda taflborða til skólans til að styðja við skákkennslu og styrkti tannlækni til

20 EYSTRAHORN

Árshátíð klúbbsins haldin á Hótel Höfn 1982. F.V. Steinþór Hafsteinsson, Sveinbjörg Friðbjarnardóttir, Hildigerður Skaftadóttir, Unnsteinn Guðmundsson og Sigríður Sigurgeirsdóttir


Eftir mikinn akstur um fjörur fann hópurinn loks krækling á nesi neðan við bæinn Þvottá. Hákon hafði tekið með sér garðhrífu til að krækja í skeljarnar og var nesið í kjölfarið nefnt Hrífunes. „Ég get sagt ykkur að ef einhver ókunnugur hefði séð aðfarirnar við hrífuna hefði hann haldið að það væri brjálaður bóndi að snúa í heyi. Okkur tókst að fylla eina fötu af kræklingi (það skal tekið fram að þetta voru ekki Sauðkræklingar),” skrifar Steinþór í frásögn sinni. Þegar heim var komið var síðar slegið upp heljarinnar veislu með kræklingi og öli.

Lyngey SF 61 undir stjórn skipstjórans Páls Dagbjartssonar. Aðrir Lionsfélagar voru Tryggvi Sigjónsson, Garðar Sigvaldason, Eiríkur Jónsson, Finnur Jónsson, Ingólfur Waage, Unnsteinn Guðmundsson, Haukur Helgi Þorvaldsson og Steinþór Hafsteinsson. Á myndina vantar Svavar Vigfússon og Axel Jónsson.

Önnur eftirminnileg fjáröflun var humarróður sem þeir félagar fóru í árið 1981. KASK lagði til bátinn Lyngey og olíu á hann og Lionsfélagarnir héldu til veiða. Afraksturinn varð 35.086 krónur sem runnu til góðra málefna. Það samsvarar rúmum tveimur milljónum króna á verðlagi dagsins í dag.

„Humartúrinn var skemmtilegur. Við fórum í róður til að hala inn pening til að nýta til góðra mála“

lifandi og fá nýja félaga til liðs við klúbbinn. Þegar Unnsteinn gegndi formennsku árið 2006 lagði hann ásamt félögum sínum sérstaka áherslu á að gera félagsstarfið skemmtilegt. Markmiðið var einfaldlega: „Við ætlum að hafa gaman saman.“ Í þeim anda lagði hann meðal annars áherslu á að á hverjum fundi kæmi einn félagi með skemmtilega sögu eða minningu sem síðan var skráð í sérstaka sögubók og lesin upp á fundi. Siðameistari klúbbsins sá um að fylgja því eftir að félagar skiluðu inn sögum sínum samviskusamlega.

Unnsteinn telur mikilvægt að halda áfram að efla félagsstarfið og fá nýjar kynslóðir til þátttöku. Reynslan hefur sýnt honum hversu miklu máli góður félagsandi skiptir, bæði til að laða að nýja félaga og halda starfinu lifandi. Sjálfur hefur Unnsteinn ekki látið deigan síga. Sextíu árum eftir stofnunina er hann enn virkur þátttakandi í félagsskapnum sem hann gekk til liðs við aðeins 21 árs gamall. Og hann vill ekki láta hjá líða að minnast á eiginkonu sína, Gerðu, sem hefur staðið þétt við bakið á honum í félagsstarfinu í gegnum árin.

Þar má meðal annars finna frásögn Steinþórs Hafsteinssonar af kræklingaleiðangri þar sem Hákon Valdimarsson var leiðangursstjóri.

ÞAÐ VERÐUR LÍKA AÐ VERA GAMAN SAMAN Þegar Unnsteinn lítur til baka er greinilegt að félagskapurinn sjálfur hefur ekki síður skipt hann máli en verkefnin sem klúbburinn hefur unnið að. Hann minnist skemmtilegra ferða félagsmanna, meðal annars til Víkur í Mýrdal og Vopnafjarðar, og þeirrar gleði sem einkenndi starfið. Ferðin til Víkur var sérstaklega minnisstæð í ljósi þess að þá voru jökulárnar enn óbrúaðar. Hann hefur jafnframt sterkar skoðanir á mikilvægi þess að halda félagsstarfinu

Árlegur og eftirminnilegur atburður var þegar Lionsklúbburinn bauð eldri borgurum til kaffisamsætis að Hótel Höfn vor hvert, ánægjulegar samverustundir.

EYSTRAHORN

21


Nýheimar þekkingarsetur er þinn tengiliður Við bjóðum alla háskólanema velkomna í Nýheima á Höfn. Í vinnuaðstöðu nemenda eru rúmgóðir lesbásar, kaffistofa, fundarrými, læstir skápar og þráðlaust internet. Hægt er að fá aðgang að aðstöðunni utan hefðbundins opnunartíma. Aðstaðan er nemendum að kostnaðarlausu

Prófþjónusta - Nemendur við alla háskóla landsins geta tekið próf í Nýheimum. Skrá þarf Nýheima sem próftökustað hjá háskólanum. Þjónustan er öllum nemendum að kostnaðarlausu. Sumarönn - Vinnuaðstaðan í Nýheimum er opin allt árið. Nemendur sem eru í námi yfir sumartímann geta því einnig fengið aðgang. Menningarmiðstöðin - Á bókasafninu er hægt að fá bókasafnskort og aðstoð við millisafnalán og heimildaleit. Auk þess er þar aðstaða til útprentunar og ljósritunar.

Við hvetjum öll áhugasöm til þess að hafa samband á nyheimar@nyheimar.is

NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR

FÉLAG ELDRI HORNFIRÐINGA KYNNIR

Eins og áður er nóg um að vera hjá eldri Hornfirðingum, hvort sem er í skipulögðu starfi eða sjálfsprottnu

Kínaskák, sem er alls ekki skák heldur spil. Lítið við í Ekru kl. 13:00 á föstudögum. Það er svo gaman

að prófa eitthvað nýtt. Í kínaskák eru aldrei of margir. Leiðbeiningar á staðnum, kaffi á könnunni. Boccia, haldið ykkur fast, alla virka daga vikunnar! Hvað með að koma við í Ekru um kl. 9:30 að morgni og í það minnsta prófa. Suma daga er spilað tvisvar sinnum. Gönguferðir, mánudaga og miðvikudaga er haldið frá Ekru kl. 10:00. Mismunandi hringir gengnir, fer eftir veðri hvort haldið er undan vindi eða móti sól. Hreyfing í vatni undir styrkri stjórn Goran. Á fimmtudögum, kl. 13:30, býður FeH upp á hreyfingu í vatni. Hreyfing í vatni hressir, bætir og kætir. Handavinnuhorn alla miðvikudaga kl. 13:00 í Ekrusal Spilað eftir hádegi á þriðjudögum. Það vantar alltaf mann í spil, hvernig væri að æfa sig í Hornafjarðarmanna, bridge eða félagsvist? Snóker, alla daga.

♣ SPILAVIST · 12., 19. OG 26. NÓVEMBER ♫ DANSIBALL Í EKRU · 8. NÓVEMBER Sjá nánar í auglýsingu á bls. 17

Stjórn FeH 2026-2027

22 EYSTRAHORN

NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR

NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR NÝHEIMAR ÞEKKINGAR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR NÝHEIMAR ÞEKKINGARSETUR

ERT ÞÚ HÁSKÓLANEMI Í SVEITARFÉLAGINU HORNAFIRÐI?


HVERNIG VILJUM VIÐ AÐ OKKUR LÍÐI EFTIR ÞRJÚ ÁR? Aðsend grein: Fræðslu- og frístundasvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Hvernig getum við í sameiningu gert Hornafjörð að enn betri stað til að búa á, þar sem auðvelt er að huga að heilsu, vellíðan og góðum lífsgæðum? Þessi spurning var í brennidepli á opnum íbúafundi sem haldinn var í Nýheimum 15. október undir yfirskriftinni „Hvernig líður þér eftir þrjú ár?“ Þar flutti Ólafur Stefánsson, handboltakappi, fræðsluerindi og í kjölfarið tóku fundargestir þátt í vinnustofu. Um 35 Hornfirðingar mættu til leiks og tóku virkan þátt í samtalinu. Unnið var í hópum og rætt um hvað hægt væri að gera í Hornafirði á næstu tveimur til þremur árum til að auðvelda íbúum að lifa heilbrigðu lífi og stuðla að heilsu og vellíðan í samfélaginu. Umræðurnar voru líflegar og fjölmargar hugmyndir og tillögur komu fram.

FJÖLBREYTTAR HUGMYNDIR Tillögurnar endurspegla vel hversu margir þættir hafa áhrif á heilsu og vellíðan okkar. Þær má í grófum dráttum flokka í sjö meginþemu: • Hreyfing og íþróttir • Geðheilsa, geðrækt og snemmtækur stuðningur • Útivist og heilsueflandi umhverfi • Félagsleg tengsl og virk þátttaka • Börn, ungmenni og fjölskyldur • Mataræði og heilsusamlegar venjur • Upplýsingar, fræðsla og samstarf Hugmyndirnar verða ekki látnar rykfalla. Stefnt er að því að nýta niðurstöður íbúafundarins, ásamt niðurstöðum barna- og ungmennaþings, við gerð aðgerðaáætlunar fyrir heilsueflandi samfélag til næstu þriggja ára. Áætlunin á að styðja við áframhaldandi stefnumótun og framkvæmdir sveitarfélagsins á sviði heilsu og vellíðunar.

Góð mæting var á íbúafundinn

Sveitarfélagið hefur nú verið þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi samfélag í tíu ár. Næstu skref snúast því bæði um að byggja áfram á því sem vel hefur tekist og hlusta eftir nýjum hugmyndum frá íbúum.

SAMTAL VIÐ FLEIRI Heimsókn Ólafs Stefánssonar náði víðar en til íbúafundarins. Hann hitti einnig nemendur í 5.–10. bekk og fundaði með foreldrafélagi Grunnskóla Hornafjarðar, þjálfurum og íþróttakennurum á svæðinu. Íbúafundurinn sýndi að Hornfirðingar hafa bæði áhuga og fjölbreyttar hugmyndir um hvernig hægt er að efla heilsu og vellíðan í samfélaginu. Nú tekur við vinna við að móta hugmyndirnar í skýrar og framkvæmanlegar aðgerðir til næstu þriggja ára.

EYSTRAHORN

23


SÖNGLEIKJASPRENGJA Í SINDRABÆ ÞEGAR LÍTIL HUGMYND VERÐUR AÐEINS STÆRRI! Aðsend grein: Leikfélag Hornafjarðar

Nú styttist óðum í að Leikfélag Hornafjarðar hendi í eina almennilega Söngleikjasprengju í Sindrabæ laugardaginn 21. nóvember! Hugmyndin hefur lengi blundað innan leikfélagsins. Okkur langaði að gera eitthvað einfalt, létt og skemmtilegt sem hægt væri að sjóða saman án þess að fara í umfangsmikla leiksýningu. En eins og þeir vita sem þekkja til leikfélagsfólks er orðið einfalt ansi teygjanlegt hugtak. Sérstaklega þegar saman kemur hópur af fólki sem er kannski örlítið of metnaðarfullt fyrir eigin hag! Þá eiga litlar hugmyndir nefnilega til að stækka áður en maður veit af. Það sem gaf okkur ákveðna hvatningu til að láta verða af þessu verkefni voru þær miklu og löngu tímabæru endurbætur sem gerðar hafa verið á Sindrabæ. Þetta gamla og góða hús, sem svo margir Hornfirðingar bera sterkar taugar til, hefur nú fengið nýtt líf og spennandi möguleika. Við sáum því kjörið tækifæri til að prófa húsið, tæknibúnaðinn og um leið gefa Hornfirðingum tækifæri til að njóta þessa frábæra menningarhúss á skemmtilegan hátt. En hvað verður svo á boðstólum? Húsið opnað klukkan 20:00 og þá verður hægt að koma sér vel fyrir, kaupa sér

24 EYSTRAHORN

drykk og njóta stemningarinnar. Klukkan 21:00 hefst svo sjálf Söngleikjasprengjan með æfðri dagskrá þar sem tónlist úr heimi söngleikjanna fær að njóta sín. Að henni lokinni ætlum við að halda fjörinu áfram með smá partýi og opnum hljóðnema þar sem gestir geta sjálfir látið ljós sitt skína. Gleðin heldur svo áfram til miðnættis. Við hjá Leikfélagi Hornafjarðar hlökkum

mikið til og vonum að Hornfirðingar fjölmenni og eigi með okkur skemmtilega kvöldstund. Og hver veit, kannski verður þetta að einhverju sem við gerum aftur? En við skulum ekki fara að skipuleggja það strax – þetta átti jú bara að vera eitthvað einfalt! Sjáumst í Sindrabæ 21. nóvember!


SKREYTINGAKVÖLD Í SAMSTARFI VIÐ SMÁTRÉ GUNNARS

DRYKKUR INNIFALINN

Byrjum jólavertíðina á notalegri samveru og skreytum tré saman 26.nóvember. Verð: 4.900 kr. Innifalið efni til að skreyta og einn drykkur.

KL. 19:30– 21:30

Hægt að kaupa tré á staðnum (þarf að panta fyrirfram á hótelinu) eða mæta með sitt eigið tré. Lágtré: 4.990 kr. Smátré: 6.990 kr. Hátré: 8.990 kr. Hlökkum til að sjá ykkur! Skráning fyrir 20. nóvember á hofn@icehotels.is eða í síma 444-4850.

verbudarbarinn

LEIKFÉLAG HORNAFJARÐAR

SÖNGLEIKJA

SPRENGJA SINDRABÆR

.

NÓVEMBER

HÚSIÐ OPNAÐ KL. 20:00 SÝNING HEFST KL. 21:00 OPEN MIC 22:00-00:00

ÁFENGIR DRYKKIR VERÐA TIL SÖLU Á SÖNGLEIKJABARNUM!

18 ÁRA ALDURSTAKMARK

EYSTRAHORN

25


AFMÆLISHÁTÍÐ ÞÓRBERGSSETURS Aðsend grein: Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs

Það var mikill hátíðardagur þegar haldið var upp á tuttugu ára afmæli Þórbergsseturs sunnudaginn 25. október síðastliðinn. Dagskráin var fjölbreytt og ánægjulegt var að margir þeir sem heiðruðu Þórbergssetur með nærveru sinni voru þar líka við opnunarhátíð setursins 30. júní 2006. Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður Þórbergsseturs setti dagskrána með fáeinum orðum. Hún lýsti þakklæti sínu til allra þeirra sem komið hafa að starfsemi Þórbergsseturs og stutt vegferðina allt frá árinu 2003 þegar sjálfseignarstofnun um Þórbergssetur var stofnuð á Hrollaugsstöðum í maímánuði það ár. Það var Pétur Gunnarsson rithöfundur sem reið á vaðið með fróðlegu erindi sem hann kallaði „Ég held ég sofni aldrei“ og vitnaði m.a. í spádóma Þórbergs um framtíðina. Þórbergur sér fyrir sér þegar hann skrifar Sálminn um blómið á árunum 1953 til 1954 að Sillar og Valdar (ríku mennirnir í Reykjavík) komi austur í Suðursveit og kaupi jarðirnar af bændunum, byggi þar hótel og síðan komi íslensku og útlendu mennirnir í heimsókn að heyra frægar sögur úr Suðursveit. Einnig fjallaði Pétur um samtalsbók Þórbergs og Matthíasar Johannessen blaðamanns Morgunblaðsins „Í kompaníi við allífið.“ Pétur hefur verið í stjórn Þórbergsseturs frá upphafi og er mikill og kær vinur á Hala. Hann hefur eytt drjúgum hluta ævi sinnar í rannsóknir á lífi og verkum Þórbergs Þórðarsonar. Í lok dagskrárinnar var frumsýnd afar merkileg heimildarmynd sem Pétur og Hjálmtýr Heiðdal listamaður settu saman úr viðtölum frá árinu 2005 og ber heitið „Í ljósi valinna samtíðarmanna.“ Þar ræðir Pétur við dóttur Þórbergs, Guðbjörgu Steindórsdóttur og þrjá af trúnaðarvinum Þórbergs þau Vilborgu Dagbjartsdóttur skáld, Pétur Pétursson útvarpsþul og Harald Ólafsson mannfræðing. Það var stór stund að hlýða á þau tala beint til okkar úr fortíðinni og minnir það sannarlega á hve litlu má muna að dýrmætar heimildir glatist.

Eftir hádegi flutti Álfdís Þorleifsdóttir erindi sitt „Bókin um blekkinguna“ og fjallaði þar um Íslenskan aðal. Það má undrum sæta hversu nútímaleg sú bók er í raun, eins og Álfdís nálgast efni hennar og tengir m.a. við jógafræðin. Þórbergur er aðalpersónan ungur ástfanginn maður og er ævinlega að ala sjálfan sig upp í anda nútíma lífsþjálfunar. Hann gengur nefnilega þar svo langt „að telja ástina blekkingu og að hamingjuna innra með okkur geti enginn fullkomnað nema við sjálf.“ Álfdís er dóttir Þorleifs Haukssonar stílfræðings frá Hólum í Hornafirði og var hann í fylgd með henni. Settist hann á stól í horni salarins eftir erindi hennar og söng með tilþrifum um Möðrudal á Fjöllum við mikinn fögnuð áheyrenda, texti og lag eftir Þórberg Þórðarson.

EINSTAKUR LISTVIÐBURÐUR Hátindur dagsins var söngur Ingveldar Ýrar Jónsdóttur söngkonu og píanóleikur Einars Bjarts. Þvílík snilld - og það innan dyra í Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Einstakur listviðburður þar sem flutt voru íslensk sönglög þar á meðal Draumalandið, Vísur Vatnsenda Rósu, Vögguvísa Halldórs Kiljans Laxness og fleiri þekkt sönglög. Píanóleikur Einars og söngur Ingveldar bárust einkar vel um salinn, og sannaðist þar hversu góður hljómburður er í svokölluðum Eystri sal í Þórbergssetri, - enda hátt til lofts og vítt til veggja. Jón Hjartarson leikari faðir Ingveldar Ýrar var með okkur í

Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur flutti afar fróðlegt erindi um „Þórbergsrannsóknir í tuttugu ár“, en hún er sú sem mest hefur rannsakað og skrifað um Þórberg og verk hans og varði doktorsritgerð sína um bókmenntaverk hans, líf og starf. Í erindi hennar kom fram rétt eins og hjá Pétri að það er mjög aukinn áhugi á verkum Þórbergs m.a. innan Háskóla Íslands þar sem fjölmörg verkefni og ritgerðir nemenda hafa litið dagsins ljós á síðustu árum. Sannast þar þau orð sem höfð hafa verið um Þórberg að undanförnu að hann „sé alltaf nýr“ og „sofni aldrei“ Þá var komið að hádegismatnum, það var kjötsúpan sem þekkt er á Hala, heimabakað brauð að vanda og meðlætið sem var afrakstur haustverkanna, svo sem bjúgu, hangiálegg, rúllupylsa og kæfa.

26 EYSTRAHORN

Þorleifur Hauksson frá Hólum flytur lag og ljóð Þórbergs sem hefur aðeins varðveist í munnlegri geymd


Þórbergssetri í tilefni dagsins og brá á leik í gervi Þórbergs. Ingveldur söng úr munarljóðum Þórbergs hjartnæma og kómíska ljóðið hans um „ástina sem aldrei flýgur aftur inn um gluggann“ við lag Tryggva M. Baldvinssonar tónskálds. Þau feðgin fluttu síðan saman Skólavörðuholtið hátt, - það þekkta kvæði Þórbergs við lag Atla Heimis Sveinssonar. Þá brustu óneitanlega fram nokkur tár á hvarma forstöðumanns Þórbergsseturs og hrifningin tók algerlega völdin um stund. Gísli Sverrir Árnason flutti erindi um starf Þórbergsseturs síðustu 20 árin. Hann hefur safnað saman heimildum um starfsemi setursins aðallega af vef Þórbergsseturs og vekur það öryggiskennd að vita að nú er sagan einnig skráð á bókfell. Hann fjallaði um framtíðarsýn fyrir Þórbergssetur og er það vitanlega ósk okkar allra að Þórbergssetur megi blómstra sem aldrei fyrr á næstu tuttugu árum. Þórbergssetur er nú á tímamótum þar sem Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður lætur af störfum á næsta ári og við tekur ungur maður Flóki Larsen, ættaður frá Selfossi. Hann er hámenntaður í bókmenntum og er með masterspróf í menningarmiðlun. Gaman verður að fylgjast með starfseminni á næstu árum þegar ungt fólk með þekkingu á nútíma tækni og miðlun heldur áfram að leiða Þórberg, verk hans, lífssýn og heimspekilegar vangaveltur inn í tæknivædda veröld nútímans.

LEYNIGESTURINN Það var einkar ánægjulegur leynigestur sem steig óvænt á sviðið og vakti mikla kátínu á meðal gestanna. Þórgunnur Torfadóttir stjórnarformaður Þórbergsseturs kallaði fyrst á Þorbjörgu og færði henni að gjöf litla einihríslu úr Suðursveit sem þakklætisvott fyrir störf hennar við Þórbergssetur. Síðan steig í pontu leynigesturinn. Það var Torfhildur Hólm Torfadóttir sem er elst tíu systkina á Hala fædd 1945 og hefur því frá mörgu að segja sem tengist mannlífinu á Hala og heimsóknum Þórbergs og Margrétar. Hún flutti skörulega frásögu af kynnum þeirra eldri systkinanna á Hala við Þórberg og ýmsum uppákomum tengdum honum og leikjum hans við börnin. Andarnir hans Þórbergs birtust nefnilega oft óvænt. Það voru skelfilegir andar sem Þórbergur lék og ráku upp gól og öskur víða í umhverfinu.

Jón Hjartarson og Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngja saman Skólavörðuholtið hátt

Gauti Árnason forseti bæjarstjórnar flutti ávarp fyrir hönd Sveitarfélags Hornafjarðar. Sveitarfélagið studdi með ráðum og dáð uppbyggingu Þórbergsseturs og ætlar að vaka yfir því áfram. Hann flutti afmæliskveðju fyrir hönd bæjarstjórnar Hornafjarðar lýsti ánægju sinni með samstarf Þórbergsseturs við stofnanir Hornafjarðar, Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu og Nýheima og óskaði þess að áfram yrði blómlegt menningarstarf í héraði á vegum Þórbergsseturs og samstarfsaðila þess. Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar flutti einkar skemmtilegt og persónulegt ávarp. Flutti hún kveðjur frá menningarmálaráðherra, Loga Einarssyni svo og Hallgrími J. Ámundasyni sem er tengiliður menningarmálaráðuneytisins við Þórbergssetur. Þórbergssetur er og verður fyrst og fremst íslenskt menningarsetur í sveit sem byggir á fornum menningararfi og mun starfa í anda Þórbergs Þórðarsonar. Það breytir samt ekki því að hér koma erlendir gestir í þúsunda tali ár hvert, - þeim þarf að mæta alla daga og kynna þeim íslenskan menningararf. Í Þórbergssetri starfa líka erlendir og hámenntaðir starfsmenn og halda uppi veitingum og móttöku þessarra ferðamanna. Því er það að áhrifa fjölmenningar gætir gjarnan áþreifanlega í Þórbergssetri. Á tuttugu ára afmæli Þórbergsseturs sást vel á skrautlegu kaffiborði hvernig fjölþjóðleg áhrif geta sem best tónað við okkar

íslensku áherslur og auðgað ótal upplifanir með vandvirkni og ómældri fagmennsku. Það var portúgalinn André Azinheira sem útbjó í tilefni afmælisins afar glæsilegt kaffiborð, - sagt var að annað eins hafi varla sést amk. í Suðursveit - en hann er lærður bakari og hefur starfað sem kokkur og bakari í Þórbergssetri í tvö ár. Það fóru því allir heim eftir ánægjulegan dag, með bros á vör og bjartsýni í huga fyrir hönd Þórbergsseturs um ókomin ár. Orð Ásu Berglindar óma sterkt en erindi hennar er birt á Þórbergsvefnum. Hún segir: „Menning er svo mikilvæg hverju samfélagi. Í mínum huga er hún nokkurs konar tengivirki. Hún tengir okkur við liðna tíð, við samfélagið fyrr og nú, náttúruna, við okkur sjálf og hjálpar okkur líka að tengjast hvort öðru.” Hlekk á beint streymi og nánari upplýsingar um afmælishátíðina má finna á vef Þórbergsseturs, www.thorbergur.is.

Hlustað af andakt. Unga fólkið sótti líka dagskrána

EYSTRAHORN

27


AÐFLUTTIR FLEIRI EN BROTTFLUTTIR

Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Fleiri fluttu til Sveitarfélagsins Hornafjarðar en fluttu þaðan árið 2025. Þetta kemur fram í nýju tölublaði Glefsu, þar sem Vífill Karlsson fjallar um búferlaflutninga á Vesturlandi en birtir jafnframt niðurstöður á kortum fyrir öll sveitarfélög landsins. Árið 2025 fluttu 680 einstaklingar til Sveitarfélagsins Hornafjarðar en 655 fluttu þaðan. Aðfluttir voru því 25 fleiri en brottfluttir. Jákvæður flutningsjöfnuður þýðir að aðfluttir eru fleiri en brottfluttir. Staðan var því Hornafirði í hag árið 2025, þótt mörg sveitarfélög annars staðar á landinu hafi búið við brottflutning umfram aðflutning. Þegar litið er til fimm ára tímabilsins 2021–2025 er myndin fyrir Hornafjörð enn hagfelldari, samkvæmt samantekt Vífils fyrir Eystrahorn. Í Glefsunni kemur jafnframt fram að niðurstöður fyrir þetta lengra tímabil séu almennt hagfelldari landsbyggðinni en niðurstöður ársins 2025. Vífill bendir einnig á að búferlaflutningar kvenna í Hornafirði hafi ekki verið mikið frábrugðnir búferlaflutningum karla á tímabilinu. Hann metur þá niðurstöðu betri en í flestum sveitarfélögum landsins. Búferlaflutningar segja þó ekki alla söguna um íbúaþróun. Eins og bent er á í Glefsunni þarf einnig að taka tillit til fæðinga og dauðsfalla þegar mannfjöldabreytingar eru skoðaðar. Fréttin byggir á Glefsu, 8. tölublaði 2026,

Fleiri fluttu til Sveitarfélagsins Hornafjarðar en þaðan árið 2025. Kortið sýnir flutningsjöfnuð sveitarfélaga á hverja 1.000 íbúa. Bláir litir tákna að aðfluttir séu fleiri en brottfluttir, en rauðir hið gagnstæða. Mynd: SSV / Vífill Karlsson

eftir Vífil Karlsson og viðbótarupplýsingum frá honum um Hornafjörð. Greining Vífils byggist á gögnum Hagstofu Íslands og Landmælinga Íslands. Vífill Karlsson

FÉLAGSFUNDUR FASK Fimmtudaginn 12. nóvember kl. 20:00 Félagsfundur FASK verður haldinn í sal Afls, Víkurbraut 4 Á DAGSKRÁ: Bókunarmál í gistingu Starfsumhverfi og rekstrarskilyrði íshellaferða í Vatnajökli Önnur mál sem brenna á félagsmönnum

OPNUNARTÍMAR Á HÖFN 2026 NÓVEMBER

16. - 18.

Mikilvægt er að félagsmenn mæti, taki þátt í umræðunni og komi sínum sjónarmiðum á framfæri um þau mál sem snerta starfsemi okkar og framtíð

Tímabókanir á netinu og í síma 570-9090 Frumherji er við Sæbraut 5

Við hvetjum alla félagsmenn og áhugasama til að mæta!

Frumherji bifreiðaskoðun - Fyrir mikilvægasta fólkið

28 EYSTRAHORN


AÐVENNTUHÁTÍÐ

Sveitarfélagsins Hornafjarðar

JÓLAMARKAÐUR

14:00 - 17:00 í Nýheimum JÓLASVEINAR

Mæta í Nýheima kl. 15:00, 16:00 og 17:00 TENDRUN TRÉSINS

17:00 verður rölt með jólasveinunum yfir á útisvæðið þar sem hlýir jólatónar heyrast og ljósin verða tendruð á jólatré bæjarins LAUGARDAGUR 28 NÓVEMBER

EYSTRAHORN 29


HAGRÆÐING Í REKSTRI, EN Á KOSTNAÐ HVERS? Aðsend grein: Eyrún Fríða Árnadóttir, bæjarfulltrúi Kex framboðs

Nú í nóvember verður fyrsta fjárhagsáætlun nýrrar bæjarstjórnar lögð fram til fyrri umræðu. Þetta verður jafnframt fyrsta fjárhagsáætlunin sem ég kem að sem fulltrúi í minnihluta. Vissulega er það breytt hlutverk þar sem við í minnihlutanum sitjum á hliðarlínunni og bíðum fregna en ábyrgð okkar í Kex gagnvart íbúum og þeirri stefnu sem við tölum fyrir er þó að engu leyti minni en hún var á síðasta kjörtímabili. Þótt hlutverkið hafi breyst er markmiðið enn það sama, standa vörð um hagsmuni íbúa, veita málefnalegt aðhald, koma með uppbyggilegar ábendingar og leggja okkar af mörkum svo að sveitarfélaginu okkar allra farnist sem best. Tíðrætt var í aðdraganda kosninga um áherslur í fjárhag sveitarfélagsins, hvar væri hægt að skera niður og hvar væri hægt að bæta í. Sveitarfélagið hefur sem betur fer verið rekið með ábyrgum hætti mörg kjörtímabil í röð og hefur staða þess verið sterk. Lág skuldastaða og sterk framkvæmdageta hafa sett okkur í öfundsverða stöðu meðal sambærilegra sveitarfélaga. Þessi sérstaða er ekki sjálfgefin og því skiptir máli að ákvarðanir sem teknar eru á þessu kjörtímabili grafi ekki undan þeim árangri sem náðst hefur. Ákall var í samfélaginu um lægri álögur á íbúa og eftir minni bestu vitund þá virðist nýr meirihluti einhuga í því að hlusta og setja það loforð í forgang. Það er auðvitað gott og skiljanlegt markmið. Í þessu samhengi má þó ekki gleyma að minnast á þær afleiðingar sem þessar ákvarðanir geta haft í för með sér. Gjöldin sem íbúar greiða eru þær tekjur sem sveitarfélagið hefur til að nýta í þjónustu, uppbyggingu og fjárfestingu í nauðsynlegum innviðum. Það er því mikilvægt að ræða það hvaða afleiðingar það hefur að skerða þær tekjur sveitarfélagsins. Engar stefnumarkandi ákvarðanir hafa verið teknar til þess að draga úr kostnaði í daglegum rekstri sveitarfélagsins, svo að eftir standa tvær leiðir til þess að mæta skertum tekjum. Annarsvegar með fækkun starfsfólks sem hefur oftast í

30 EYSTRAHORN

för með sér annað hvort aukið álag eða skerta þjónustu til íbúa, jafnvel bæði á sama tíma. Hinsvegar er hægt að mæta lægri tekjum með minni framkvæmdum. Það er auðvelt að kynna slíkar breytingar sem “hagræðingu” en réttara væri að nota orðið niðurskurð. Hagræðing er viðvarandi viðfangsefni sveitarfélagsins sem felur í sér greiningu, þar sem samnýting, tæknilausnir og nýting á tíma og peningum er útfærð til þess að ná fram jafngóðum eða betri árangri fyrir lægri kostnað. Það sem við óttumst þó að sé að gerast er beinn niðurskurður eingöngu til þess að uppfylla kosningaloforð sem gefin voru í vor, á kostnað annarra loforða og væntinga íbúa. Með því að lækka álögur er eitt þeirra uppfyllt, en erfitt er að sjá hvernig önnur verða uppfyllt á sama tíma. Nokkur af markmiðum nýs meirihluta eru að vinna þjónustustefnu, vinna að markaðssetningu og stuðla að bættri upplýsingamiðlun til íbúa. Á sama tíma hafa stöður verkefnastjóra markaðsmála og viðburða og deildarstjóra skrifstofu- og þjónustudeildar verið lagðar niður í nafni hagræðingar. Tekjur

sveitarfélagsins

koma

frá

íbúunum og það er á ábyrgð okkar í bæjarstjórn og nefndum, að nýta þá fjármuni með skynsamlegum hætti, bæði til að sinna lögbundnum verkefnum og til að byggja upp þá þjónustu og aðstöðu sem íbúar kalla eftir og eiga skilið. Eflaust líður einhverjum betur með lægri reikninga, en miðað við þau samtöl sem við áttum við íbúa í vor er ljóst að margir leggja ekki síður áherslu á uppbyggingu íþróttamannvirkja, aukinn stuðning í skólum, húsnæði fyrir eldri borgara, öflugra menningarstarf og raunverulegar umbætur í þjónustu sveitarfélagsins. Það kann vel að vera hægt að ná fram hagræðingu og sinna þessum verkefnum með öðrum hætti, en þá þarf að liggja fyrir skýr áætlun um hvernig það verður gert. Það þarf að sýna fram á að breytingarnar skili raunverulegum ávinningi án þess að þjónustan verði fyrir skaða eða nauðsynlegri uppbyggingu verði frestað um ófyrirséðan tíma. Íbúar eiga rétt á að vita ekki aðeins hvað á að spara, heldur líka hvaða áhrif sparnaðurinn mun hafa og hvernig sveitarfélagið ætlar áfram að mæta þörfum þeirra og væntingum.


FINDING THE PATH TO SUSTAINABILITY

CONFERENCE

25. NOVEMBER 2026, 09:00-14:00 GLACIER ADVENTURE BARN, HALI

Oft Veltir Lítil Þúfa Þungu Hlassi Single Grain Can Tip The Scale How individuals and small communities can influence the future through their participation, cooperation, and collaboration. Agenda

9:00 - 9:10 Haukur Ingi Einarsson, Glacier Adventure 9:10 - 9:30 Dr. Þorvarður Árnason, University Center 9:30 - 9:40 Dr. Christine Palmer, SIT 9:40 - 10:00 University students, SIT 10:00 - 10:30 Discussions

10:30 - 10:50 Charli, Vatnajökull National Park

12:00 - 12:45 Lunch 12:50-13:10 Hólmfríður

10:50 - 11:10 Guðjón Ragnar

Jakobsdóttir Biologist and María

Jónsson, FAS principal

Rúnarsdóttir Ecologist, NATTSA

11:10 - 11:30 High school

13:10 - 13:30 Dr. Konstantine

students, FAS

Vlasis, Ph.d. Graduate

11:30 - 12:00 Discussions

13:30 - 14:00 Final discussions

The conference emphasises on how connecting different groups and working together, we can strengthen communities and create a more sustainable future. Free entrance. Lunch included offered by SIT. November 25th, 09:00 - 14:00 at Glacier Adventure barn in Hali. Due to limited capacity of the barn, the event holds 100 guests. Please sign up by emailing us to info@glacieradventure.is

EYSTRAHORN

31


NÝR DÝRALÆKNIR Í AUSTURSKAFTAFELLSSÝSLU Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Anjeza Muco, kölluð Agnes, mun sinna dýralæknaþjónustu í AusturSkaftafellssýslu og Múlaþingi, austur á Djúpavog og hafa aðsetur í Flatey á Mýrum. Harpa Ósk Jóhannesdóttir, dýralæknir í VesturSkaftafellssýslu, hefur ráðið hana til starfa og gert tímabundinn samning við Matvælastofnun um þjónustu á svæðinu. Samningurinn gildir frá 1. nóvember 2026 til 31. ágúst 2027. jafnframt sinna bráðaútköllum og eiga dýraeigendur því að hafa beint samband við hana í neyðartilvikum. Harpa starfar áfram í Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem hún hefur komið upp aðstöðu til meðal annars röntgenmyndatöku, blóðgreininga og sónarskoðana. „Við hlökkum til að kynnast dýraeigendum á svæðinu og eiga með þeim ánægjulegt samstarf,“ segir Harpa.

Agnes ásamt Hörpu Ósk

Að sögn Hörpu er samningnum ætlað að brúa bilið þar til varanlegri lausn fæst á dýralæknaþjónustu á svæðinu. Ekki liggur þó endanlega fyrir hvernig þjónustunni verður háttað að samningstíma loknum. Nokkur óvissa hefur ríkt um framhald dýralæknaþjónustu á svæðinu eftir að Janine Arens lét af störfum að loknu löngu starfi við dýralækningar í Austur-Skaftafellssýslu. Samkvæmt upplýsingum frá Hörpu munu þær sinna allri almennri dýralæknaþjónustu og koma upp aðstöðu til móttöku gæludýra í Flatey. Agnes kemur frá Ítalíu og er að læra íslensku, en samskipti við hana fara enn sem komið er fram á ensku. Hún mun taka við almennum tímabókunum og óskum um vitjanir. Hún mun

Auglýsing um skipulagsmál Kynningarfundur um deiliskipulagstillögu Móa (Hnappavöllum) verður haldinn mánudaginn 9. nóvember 2026 kl. 12:00 í fundarsal ráðhússins. Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is

32 EYSTRAHORN

BÆNDUR PANTI BÓLUSETNINGAR TÍMANLEGA Sauðfjárbændur á svæðinu eru beðnir um að hafa samband við Hörpu Ósk til að panta bólusetningu ásetningslamba við garnaveiki. Pantanir berist á netfangið volustakkur@gmail.com eða í síma 865-2781. Mikilvægt er að panta tímanlega svo hægt sé að skipuleggja bólusetningarnar og áætla fjölda lamba. Harpa bendir á að þær hafi ekki þjónustað svæðið áður og hafi því ekki nákvæma yfirsýn yfir þann fjölda. Tímabókanir, vitjanir og bráðaútköll: Hafa skal beint samband við Agnesi í síma 837-5962. Einnig verður hægt að fylgjast með upplýsingum, fréttum og fróðleik frá þeim á Facebook- og Instagram-síðum Völustakks.


FÉLAG ELDRI HORNFIRÐINGA

Samvera í desember

Hótel Höfn, föstudaginn 4. desember 2026 Húsið opnað kl. 18:30 · Borðhald hefst kl. 19:00 Fordrykkur: Bjórglas, léttvín eða óáfengur drykkur Þjónað verður til borðs

Veislustjóri verður Guðbjartur Össurarson

Verð 9.990 kr

Þriggja rétta kvöldverður:

Hreindýrapaté með trönuberjasósu og rúgbrauði Andabringa með sólberjasósu, kartöflumús og gljáðum gulrótum Hvít súkkulaðimús með lakkrístoppum og kaffi í boði

Skráning fyrir 27. nóvember á eirnyvals@gmail.com

100 sæti í boði. Látið vita af ofnæmi. Vinsamlega greiðið ekki við skráningu. Greiðslu verður óskað eftir að staðfesting hefur borist.

EYSTRAHORN

33


KRÓNAN TEKUR Á SIG MYND Á HÖFN Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Nú styttist í að ný verslun Krónunnar verði opnuð á Höfn, en stefnt er að opnun síðar í nóvember. Verslunin verður til húsa að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina, og mun auka valkosti í matvöruverslun fyrir íbúa Hornafjarðar. Fulltrúar Eystrahorns fengu á dögunum að skoða húsnæðið og kynna sér undirbúninginn fyrir opnunina. Þar er verslunin óðum að taka á sig mynd, en hún verður um 1.200 fermetrar að stærð og mun bjóða upp á um 7.500 vörur. Stærstu verkþættir framkvæmdanna eru nú langt komnir og unnið er að lokafrágangi, uppsetningu tæknikerfa og merkingum. Í kjölfarið verður hafist handa við að fylla hillurnar og gera allt tilbúið fyrir fyrstu viðskiptavinina. Fjöldi verktaka úr Hornafirði hefur komið að framkvæmdunum, meðal annars smiðir, píparar, rafvirkjar og málarar, sem hafa unnið ásamt verktökum með reynslu af uppbyggingu annarra Krónuverslana. Þá hefur fyrirtækið einnig nýtt sér þjónustu á svæðinu vegna flutninga, gistingar, ræstinga og annarra verkefna. Að sögn Krónunnar hefur samstarfið við heimamenn gengið vel og fyrirtækið fengið góðar móttökur í samfélaginu. Opnunin skapar jafnframt ný atvinnutækifæri á Höfn. Gert er ráð fyrir sjö stöðugildum í fullu starfshlutfalli auk 12 til 14 hlutastarfa. Þegar snjallverslun opnar er ráðgert að 12 manns verði í fullu starfi í versluninni. Ráðningar eru þegar hafnar og nú er verið að leggja lokahönd á mönnun verslunarinnar. Að sögn Krónunnar er lögð áhersla á að ráða starfsfólk úr nærsamfélaginu. Nýr verslunarstjóri Krónunnar á Höfn er Ilektra Mitsopoulou kölluð Elektra. Hún hyggst flytja til Hafnar ásamt eiginmanni sínum á næstu vikum. Elektra hefur starfað hjá Krónunni um árabil og var meðal annars vaktstjóri í Vík í Mýrdal í nokkur ár, auk þess að hafa gegnt starfinu á öðrum stöðum.

34 EYSTRAHORN

Mikið var í gangi í nýrri verslun Krónunnar þegar Eystrahorn leit við

F.v. Freyja markaðsstjóri, George aðstoðar-verslunarstjóri, Elektra verslunarstjóri, Guðrún framkvæmdastjóri og Ólafur rekstrarstjóri

Í versluninni verður meðal annars stór ávaxta- og grænmetisdeild, fjölbreytt úrval ferskvara, brauðmetis og lífrænna vara. Þar verða einnig sjálfsafgreiðslukassar og aðstaða fyrir Snjallverslun verður í boði síðar. Verslunin er hönnuð með kröfur Svansvottunar að leiðarljósi og stefnt er að því að hún hljóti slíka vottun. Eitt af því sem rætt var í heimsókn Eystrahorns var mögulegt samstarf Krónunnar við framleiðendur í Hornafirði og nágrenni.

„Við erum opin fyrir samtali við staðbundna framleiðendur um mögulegt samstarf og hvernig vörur þeirra gætu ratað í hillur verslunarinnar,“ segir í svörum Krónunnar til Eystrahorns. Nákvæm opnunardagsetning liggur ekki enn fyrir. Krónan hefur boðað sérstök opnunartilboð, meðal annars 5% afslátt á opnunardaginn fyrir viðskiptavini sem nýta sér Krónuappið og þjónustuna Skannað og skundað.


Halló Höfn! Við opnum nýja og glæsilega verslun í nóvember, hlökkum til að sjá ykkur! Vertu klár í að Skanna og skunda í nýju versluninni og sæktu appið hér

Snjallar lausnir - Gott úrval - Lágt verð

Afgreiðslutímar á kronan.is EYSTRAHORN

35


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eystrahorn 9.tbl 2026 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu