EYSTRAHORN 8. tbl. 44. árgangur 1. október 2026
EITT ÁR AF EYSTRAHORNI HVAÐ SVO? Í janúar á þessu ári ákváðum við að fara aftur af stað með útgáfu Eystrahorns og prófa það til eins árs.
Það hefur verið sérstaklega gaman að fylgjast með blaðinu taka á sig mynd á þessu ári og enn skemmtilegra að finna fyrir öllum jákvæðu viðbrögðunum og sjá hvernig því hefur verið tekið. Frá upphafi hefur markmiðið verið að Eystrahorn verði héraðsmiðill íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði og vettvangur fyrir það sem er að gerast í samfélaginu, eins konar skilaboðaskjóða okkar allra. Þrjú blöð eiga eftir að koma út á árinu 2026. Næsta blað kemur út fyrsta fimmtudaginn í nóvember og í desember stefnum við á tvö blöð: annað fyrsta fimmtudaginn í desember og síðan jólablað fimmtudaginn 17. desember. Við þekkjum það öll að áður en við vitum af eru jólin komin og því þurfum við hvað úr hverju að fara að undirbúa jólablaðið. Eins og síðast sjáum við fyrir okkur stútfullt blað sem notalegt verður að setjast niður með um jólin og njóta. Við viljum því hvetja ykkur til að senda okkur efni sem gæti átt þar heima: jólasögur, jólaminningar, gamlar ljósmyndir, frásagnir af jólahaldi fyrri tíma, sérstakar hefðir eða annað sem tengist jólum og aðventu í Hornafirði. Efnið þarf alls ekki að vera fullunnin grein;
góð saga eða skemmtileg ábending getur verið alveg nóg til að byrja með. Við höfum tekið þá ákvörðun að stefna ótrauð á áframhaldandi útgáfu Eystrahorns eftir áramót, í svipaðri mynd og hingað til. Stefnt er að útgáfu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, nema í janúar og með sama fyrirkomulagi í sumarfríinu og í ár. Á sama tíma viljum við efla eystrahorn.is og nýta vefinn betur á milli blaða. Þar viljum við gjarnan fá fleiri með okkur í lið. Félög, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar mega endilega senda okkur fréttatilkynningar eða annað efni sem gæti átt heima á vefnum. Við metum þá hvort efnið eigi best heima þar, í næsta prentaða Eystrahorni eða hvoru tveggja. Til þess að hægt sé að halda útgáfunni áfram til lengri tíma þarf reksturinn líka að standa undir sér. Fastir styrktaraðilar og fyrirtæki í reglulegu auglýsingasamstarfi skipta þar miklu máli. Við leitum því sérstaklega til fyrirtækja sem vilja leggja útgáfunni lið með föstum auglýsingasamningum eða styrktarframlögum og hjálpa okkur þannig að byggja upp sjálfbæran
rekstrargrundvöll. Að lokum langar mig að þakka öllum sem þegar styðja við blaðið á einn eða annan hátt: styrktaraðilum, áskrifendum, auglýsendum, þeim sem senda inn efni, sjálfboðaliðum við útburð og lesendum. Það er aðeins með þátttöku margra sem svona lítill héraðsmiðill getur dafnað.
NÆSTA
Eystrahorn 5. NÓVEMBER
- SKILAFRESTUR föstudagurinn 30. október
eystrahorn.is Útgefandi: HLS ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir Netfang: eystrahorn@eystrahorn.is Sími: 867 6604 Heimasíða: www.eystrahorn.is
Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes Umbrot: Tjörvi Óskarsson Forsíðumynd: Þorsteinn Roy Jóhannsson, tekin á Öskuhnútu Prentun: Litlaprent ISSN 1670-4126
GUÐRÚN ÁSDÍS Ritstjóri
HRÓSIÐ
Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is.
HÓTEL SKAFTAFELL OG SKÓLATEYMIÐ Í ÖRÆFUM Ég heiti Sophia Fingerhut og er sérkennari við Grunnskólann á Hofgarði í Öræfum. Skólinn okkar er nú í endurbótum, sem þýðir að við höfðum ekki aðgang að kennslurýmum þegar skólaárið hófst. Þar höfum við verið einstaklega heppin að hafa Önnu Maríu Ragnarsdóttur, eiganda Hótels Skaftafells, okkur við hlið. Hún brást fljótt við og útvegaði okkur húsnæði í hótelinu sínu, þannig að við getum nú haldið skólastarfinu gangandi. Þrátt fyrir að nú sé háannatími í ferðaþjónustunni höfum við fengið einstaklega hlýjar og góðar móttökur frá öllu starfsfólkinu. Nemendur okkar fá á hverjum degi ljúffengan hádegisverð á hótelinu og njóta þeirrar einstöku og notalegu stemningar sem þar ríkir. Anna María er sannarlega einstök manneskja og hefur fullvissað okkur um:
Hótel Skaftafell
„Við reddum þessu saman!“ Hún og starfsfólkið hennar eiga sannarlega mikið hrós skilið, því það er alls ekki sjálfgefið að leggja svona mikið á sig fyrir okkur. Mig langar einnig að hrósa okkar frábæra skólateymi! Vegna endurbótanna, sem munu auk þess kalla á töluverða tiltekt og vinnu, störfum við nú á tveimur stöðum.
Allir standa sig frábærlega og hjálpast að svo allt gangi sem best. Mig langar sérstaklega að nefna skólastjórann okkar, Áróru Gústafsdóttur, sem leggur sig fram á hverjum einasta degi langt umfram það sem ætlast er til. Með skapandi lausnum, mikilli elju og ótrúlegri vinnu nær hún alltaf að gera sitt allra besta fyrir nemendur okkar. Þið eruð algjörlega frábær! Sophia Fingerhut
LEIKSKÓLINN Á HÖFN Ég fer yfirleitt á hverjum virkum morgni með stelpurnar mínar, eins og þriggja ára, í leikskólann. Milli pesta auðvitað. Á hverjum morgni er tekið á móti þeim með hlýju og brosi á vör og stelpurnar mínar alltaf svo glaðar að mæta og glaðar eftir daginn. Ég vil því hrósa starfsfólki og leikskólakennurum Sjónarhóls fyrir gott starf og þakka fyrir umhyggjuna sem ég hef fundið fyrir í garð barnanna minna undanfarin ár. Róslín Alma Valdimarsdóttir
Starfsfólk leikskólans á árshátíð sveitarfélagsins
Daglegar ferðir milli Hafnar og Reykjavíkur Sími: 470 8220 EYSTRAHORN
3
FYRSTA ÆFING KÓRALS MÆTTI EINHVER? Aðsend grein: Kórall
Fyrsta æfing Kórals var haldin í Sindrabæ fimmtudaginn 17. september síðastliðinn. Það væri lygi að halda því fram að það hafi ekki örlað á smá stressi hjá stofnendum kórsins fyrir æfinguna.
Um 30 manns mættu á fyrstu æfinguna, fjölbreyttur hópur á aldrinum 15 ára til 70 ára
“Mætir einhver? Verða þetta bara við? Hvað ef það kemur enginn, eða ótrúlega margir?”
aldna, að ganga til liðs við okkur í Kóral, því það er meira en nóg pláss fyrir tenóra og bassa í blandaða kórnum okkar.
Við vissum raunverulega ekki á hverju við ættum að eiga von á, en VÁ! Mætingin fór fram úr okkar björtustu vonum. Þrjátíu voru saman komin í salnum með það eitt að markmiði að syngja saman. Til fróðleiks þá má nefna það að á fyrstu æfingu Kórals spannaði aldursbilið 55 ár, elst var 70 ára og yngst 15 ára. Einnig er gaman að nefna að þátttakendur komu frá fjórum löndum og sungu allir saman á íslensku.
Kórstjóri Kórals er Björg Blöndal og undirleikari er Hörður Alexander Eggertsson. Þau hafa líka fengið Þorkel Ragnar Grétarsson til liðs við sig og ætlar þríeykið að sjá um að útsetja tónlist sérstaklega fyrir kórinn.
Við í Kóral viljum leggja sérstaka áherslu á að búa til öruggt og skemmtilegt umhverfi, þar sem öllum líður vel, ólíkir hópar mætast og tónlistin er í forgrunni. Kórinn er opinn öllum kynjum, en viljum við sérstaklega hvetja karlmenn, unga sem
4
EYSTRAHORN
Þeir sem mættu í fyrsta skipti í kór fá sérstakt hrós, við vitum að þetta getur verið risastórt skref út fyrir þægindarammann og ekki auðvelt að taka fyrsta skrefið. Kórinn Kórall vill þakka öllum þeim sem mættu á fyrstu æfinguna hjartanlega fyrir. Ef þið komust ekki á fyrstu æfinguna, en viljið vera með, þá verður næsta æfing fimmtudaginn 1. október klukkan 20:30 í Sindrabæ.
Hægt er að fylgjast með kórnum bæði á Facebook og Instagram undir nafninu Kórinn Kórall: Facebook: Kórinn Kórall Instagram: @korinn.korall Hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið hafið einhverjar spurningar. Söngkveðjur, Birna Jódís Magnúsdóttir Björg Blöndal Sigrún Birna Steinarsdóttir Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir
Komdu í Hoffell Líttu við og njóttu haustsins í einstakri náttúru. Opið alla daga til og með 15. nóvember kl. 12-21. Verð er 4.500 kr. fyrir fullorðna (12 ára og eldri) og 900 kr. fyrir börn (2-11 ára). Við tökum vel á móti þér!
glacierworld.is EYSTRAHORN
5
HEILUN OG ÁHRIF HENNAR Á FÓLK Aðsend grein
Fyrir 31 ári síðan fór ég á mitt fyrsta Reiki-námskeið. Námskeiðið var haldið á Höfn, á vegum Kiwanisklúbbsins Óss. Þá hefði ég aldrei getað ímyndað mér hvert þetta ferðalag ætti eftir að leiða mig. Þegar ég hugsa til baka þá er það líka mjög merkilegt að karlaklúbbur skyldi fá Reikimeistara til Hafnar þar sem heilun vekur yfirleitt áhuga hjá fleiri konum en körlum. Reiki varð hluti af minni eigin vegferð og hefur fylgt mér í gegnum árin, sem leið til að finna meiri ró, tengjast sjálfri mér og vinna með þá orku sem býr innra með mér. Á þessari vegferð minni hef ég kynnst fjölda fólks sem er að leita. Það er ótrúlega mikil streita í umhverfi okkar sem við föttum ekki fyrr en við kynnumst því hvað ró er og hvernig er hægt að slaka á í hversdeginum. Mjög margir byrja á öfugum enda og eru í raun að bíða eftir því að einhver færi þeim lausnina á silfurfati en fatta svo ekki að það þarf fyrst að byrja á sjálfum sér. Þegar þú leyfir innsæinu að ráða fara breytingarnar að gerast. Fyrir mér hefur það verið frábær leið til að staldra við, róa hugann og tengjast sjálfum sér. Hún getur hjálpað okkur að gefa okkur tíma til að hlusta inn á við, sleppa spennu og skapa ró og jafnvægi í lífinu. Síðustu 14 árin hef ég verið að kenna Reiki heilun og fleira sem eflir sjálfstraustið. Ég hef bætt við mig þekkingu sem sjúkraliði og einbeitt mér að mannlega þættinum í mínu starfi. Nú, 31 ári síðar, kem ég aftur á Höfn til að deila þeirri þekkingu og reynslu sem hefur fylgt mér á þessari vegferð. Ég verð í Sjálfstæðishúsinu á Höfn helgina 6.-8. nóvember og verð með tvö námskeið. Annars vegar svokallað Nornaþing sem er 5 klukkustunda námskeið fyrir konur á föstudeginum. Reikiheilun 1. og 2. stig verður svo kennt á laugardag og sunnudag. Til þess að taka þátt í námskeiðunum þarf enga sérstaka kunnáttu, bara að mæta með opinn huga og góða skapið. Það er hægt að fá nánari upplýsingar og skrá sig með því að senda mér tölvupóst á svava@ tvaerstjornur.is Kannski er þetta þitt fyrsta skref inn á nýja braut, rétt eins og það var fyrir mig fyrir 31 ári. Svava Bjarna Geðsjúkraliði • Andlegur einkaþjálfari • Reikimeistari
6
EYSTRAHORN
FAS Á FJALIRNAR Aðsend grein: Guðjón Ragnar Jónasson
Í FAS hefur löngum verið rík hefð fyrir öflugri leikhúsmenningu. Áhugi er innan skólans að efla tengslin við leikfélagið. Í því augnamiði hefur verið stofnaður leikhúshópur sem áformar að leggja land undir fót og fara í leikhús í Reykjavík og fara um leið á listasafn. Einnig er hugsanlegt að við heimsækjum áhugaleikhópa á fjörðunum. Markmið hópsins er sem sagt að fara í leikhús en einnig horfa á leikrit á góðu breiðtjaldi í Sindrabæ. Síðast en ekki síst ætlum við að ræða leikverkin og fá tækifæri til að skyggnast baksviðs og spjalla við leikarana eftir sýningu. Vonandi náum við einnig að funda með þeim á Teams eftir sýningu til að ræða verkið og brjóta það til mergjar. Sem sagt, markmið þessa klúbbs er að efla hið menningarlega auðmagn í FAS en höfuðborgin mun í víðum skilningi leggja okkur til litina, lyktina og leiktjöldin.
Meðlimir í leikhúshóp FAS. Frá vinstri: Sóley Eir, Bryndís Jóna, Eyrún Stína, Freyja Dís, Björg og Sunna Dís
AFMÆLISHÁTÍÐ ÞÓRBERGSSETURS Í tilefni af 20 ára afmæli Þórbergsseturs verður menningarveisla á Hala þann 25. október næstkomandi
25. október 11:00-17:00
Dagskrá 11:00 Setning 11:05 „Ég held ég sofni aldrei“ erindi Pétur Gunnarsson rithöfundur 11:40 Rannsóknir á verkum Þórbergs Þórðarsonar síðastliðin 20 ár; Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur 12:10 Hádegisverður 13:00 Kærkominn gestur; Ingveldur Ýr Jónsdóttir söngkona syngur nokkur lög, píanóleikur: Einar Bjartur 13:30 14:00 14:20 14:50
„Bókin um blekkinguna“ Álfdís Þorleifsdóttir bókmenntafræðingur Söngur, Ingveldur Ýr Jónsdóttir og Jón Hjartarson, leikari Þórbergssetur í tuttugu ár; Horft til framtíðar; Gísli Sverrir Árnason sagnfræðingur Í tilefni dagsins; Þórgunnur Torfadóttir stjórnarformaður Þórbergsseturs
Kaffiveitingar 15:40 Söngur, Ingveldur Ýr Jónsdóttir 16:05 Frumsýnd kvikmynd „Þórbergur í ljósi valinna samtíðarmanna“ Höfundur Pétur Gunnarsson, framleiðandi Þorgeir Gunnarsson, tökumaður Dagur Kári Pétursson, hljóðmaður Varði Björgúlfsson. Hjálmtýr Heiðdal sá um klippingu og samsetningu 17:00 Dagskrá lokið
Verið velkomin – við vonumst til að sjá sem flesta
Þórbergssetur EYSTRAHORN
7
SAGA VÖLVUNNAR Á KÁLFAFELLSSTAÐ Aðsend grein: Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs
Fastur liður í starfsemi Þórbergsseturs er að halda tónleika ár hvert í samstarfi við Kálfafellsstaðarkirkju þann 29. júlí á Ólafsmessu á sumri.
Völvusagan var kvikmynduð og birtist í heimildamynd Sigrúnar Völu Valgeirsdóttur. Draumar, konur og brauð. Steinunn Jónsdóttir og Svanlaug Jóhannsdóttir flytja söng völvunnar við völvuleiðið undir Hellaklettum að loknum tónleikum í Kálfafellstaðarkirkju árið 2023
Um leið er rifjuð upp ævaforn saga um völvuna á Kálfafellsstað sem Torfhildur Hólm Þorsteinsdóttir skáldkona skráði fyrst niður. Segir hún völvuna vera systur Ólafs helga Noregskonungs og hafa flúið Noreg eftir að Ólafur bróðir hennar var drepinn á Stiklastöðum árið 1030 og kom hún hér til Íslands í öruggt skjól. Samkvæmt Flateyjarbók bar hún nafnið Gunnhildur Sigurðardóttir og maður hennar var Ketill kálfur og reistu þau bú á Kálfafelli. Þessi saga á rætur sínar að rekja í frumkristni á Íslandi allt frá því er Kálfafellsstaður var valinn kirkjustaður sveitarinnar og helgaður dýrlingnum Ólafi helga. Var völvan hrakin af staðnum á hjáleiguna Butru sem er þar nærri og átti hún í deilum þar við prestinn. Lagði hún þau álög á staðinn að þar gæti enginn
8
EYSTRAHORN
prestur unað lengur en 20 ár og urðu þessi álög að áhrínsorðum. Þegar völvan dó var hún jarðsett í óvígðri mold neðan við Hellakletta í landi Kálfafellsstaðar langt frá alfaraleið. Um aldamótin 1700 var prestur á staðnum sem undi sér vel og útvegaði hann fagurskreytta styttu af dýrlingnum Ólafi helga til að hrinda álögunum. Sat sá presturinn þar í besta yfirlæti í alls 28 ár. Geta má þess að séra Brynjólfur Guðmundsson sat staðinn í tæp 60 ár eftir þetta á árunum 1727 - 1786 og var þá talið fullsannað að álögum völvunnar hafi verið hrundið. Það var áfram trú manna að ef að prestar hlóðu upp leiði völvunnar eða hlúðu að því þá vildi til eitthvert happ í lífi þeirra. Það gerðist einmitt um aldamótin 1900 þegar séra Pétur Jónsson þurfti að byggja nýtt íbúðarhús á staðnum. Hafði hann sent vinnumenn sína að hlaða upp
leiðið, en skömmu síðar átti að senda þá til Djúpavogs að kaupa viði til byggingar íbúðarhússins. Þá gerist það að rekur stórt og mikið tré á Sléttaleitisfjöru sem var í eigu kirkjunnar, tréð náði meðalmanni í mjaðmarhöfuð, segir Steinþór Þórðarson á Hala, var ferkantað og alin á breidd, segir Vilhjálmur Guðmundsson á Gerði, en 60 feta langt, - en þeir mundu báðir eftir þessum atburði þegar þeir segja söguna. Dugði rekatréð í alla burðarviði prestbústaðarins og vinnumenn hans fengu það verkefni að saga viðinn niður í stað kaupstaðarferðarinnar á Djúpavog. Nú var svo komið á Kálfafellsstað í Suðursveit árið 2007 að presturinn á Kálfafellsstað séra Einar Guðni Jónsson hafði verið á staðnum í hartnær 18 ár og styttast fór í örugga vist hans samkvæmt álögum völvunnar. Þá sitja þeir í samræðum Fjölnir Torfason á Hala og séra Einar en hann var afabarn séra Péturs er síðast lét hlaða upp leiðið. Fjölnir
Kálfafellsstaðarkirkja sem var vígð árið 1927
ræðir við prest af miklum þunga að nú sé vissara fyrir hann að fara að huga að því að lagfæra leiðið eða sýna völvunni einhverja umhyggju ef honum á að auðnast að sitja staðinn lengur. Einar tók orð hans alvarlega og það verður að samkomulagi þeirra á milli að hann taki það að sér að hlúa að leiðinu ár hvert, en Fjölnir og þeir í sameiningu haldi síðan mikla hátíð til að minnast völvunnar þegar þessum gjörningi prestsins er lokið. Þetta verður úr og því er það að árið 2008 er stofnað til fyrstu tónleika í Kálfafellsstaðarkirkju í samvinnu við Þórbergssetur þegar séra Einar hefur klippt og snyrt til í kringum leiðið undir Hellaklettum. Það var því 29. júlí það ár sem fyrstu tónleikarnir voru haldnir, völvusagan lesin í kirkjunni, völvuleiðið heimsótt og síðan voru kaffiveitingar í Þórbergssetri að lokinni athöfn. Björn Bjarnason þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra var einn af gestum hátíðarinnar og Rut Ingólfsdóttir og Richard Simm spiluðu á tónleikunum, ógleymanlegur dagur og ákveðið var að gera þetta að árlegum viðburði í Suðursveit. Geta má þess að Rut Ingólfsdóttir hafði einmitt tekið upp fiðluleik sinn í Kálfafellsstaðarkirkju áður og valið þann stað vegna einstaklega góðs hljómburðar og sannaðist þar að kirkjan er afar vel fallin til tónleikahalds.
Bjartmar Guðlaugsson og María Helga Haraldsdóttir á tónleikum í Kálfafellsstaðarkirkju síðastliðið sumar
Alls hafa nú verið haldnir 18 tónleikar til heiðurs völvunni með fjölmörgum listamönnum. Verður þetta vonandi að föstum sið í Suðursveit alla tíð enda unun að hlýða á góða tónlist í kirkjunni á Kálfafellsstað. Segja má því að mikill sé máttur völvunnar á Kálfafellsstað og að enn gætir áhrifa frá búsetu og lífi hennar, - konu sem bar að landi í Suðursveit fyrir tæplega 1000 árum síðan. Og ef til vill er það svo að örnefnin Gunnhildarsker og Gunnhildarvík úti fyrir fjöru Borgarhafnar beri vitni um landtöku hennar við Bjarnahraunssand. Um það eru eðlilega engar heimildir eða vitni en ekki skaðar að þekking á þeim örnefnum tengist þessari gömlu sögu. Styttan af Ólafi helga stóð við altarið í Kálfafellsstaðarkirkju og söfnuðurinn hneigði sig fyrir henni þegar gengið var inn í kirkjuna í nær tvær aldir, - en í Knútsbyl 7. janúar 1886 í miklu fárviðri fauk nýreist timburkirkja af grunni og brotnaði í spón. Styttan af Ólafi helga fannst þá standandi upprétt niður í fjöru langt neðan við Kálfafellsstað. Var hún gefin til Þjóðminjasafnsins og er meðal merkustu kirkjumuna Íslands þar. Þangað er gaman að koma og heimsækja Ólaf helga sem horfir til manns hvössum augum og minnir
Styttan af Ólafi helga en hann var verndardýrlingur kirkjunnar á Kálfafellsstað í kaþólskum sið
okkur á tilveru sína í Suðursveit löngu eftir að kaþólskum sið og dýrlingatrú var hnekkt með siðaskiptum á Íslandi.
EYSTRAHORN
9
HUGRENNINGAR SKÓLABÍLSTJÓRANNA Aðsend grein
Fyrirhuguð vetrarþjónusta á vegum 99 og 987 gerir ráð fyrir því að vegirnir séu þjónustaðir annars vegar frá kl 8:00 og hinsvegar 9:30 – 20:30 alla daga nema þriðjudaga og laugardaga þar sem engin vetrarþjónusta er fyrirhuguð þá daga. Það hlýtur að vekja spurningar hjá íbúum í dreifbýli sveitarfélagsins að fyrirhuguð vetrarþjónusta tekur ekki tillit til þess að skólaakstur hefst mun fyrr enda eiga börnin að vera mætt í skólann kl 8:10 – og það á líka við um þriðjudaga. En börn í dreifbýlinu þurfa víst líka að sækja skóla á þeim dögum. Börn í dreifbýlinu eru komin í skólabílana um klukkan sjö á morgnana. Þarna erum við ekki að tala um vegi sem eru lítið notaðir eða einhverja aukavegi sem fólk getur auðveldlega sleppt að aka um. Þetta eru vegir sem íbúar nota daglega til og frá vinnu og þar fer reglubundinn skólaakstur fram með börn innan sveitarfélagsins. Á virkum dögum aka skólabílarnir um vegina allt að 12–14 sinnum á dag. Það er því eðlilegt að spyrja: Hvernig getur það talist eðlilegt fyrirkomulag að engin vetrarþjónusta sé á þriðjudögum þegar skólabíllinn þarf að fara allt að 14 ferðir um vegina þann dag?
Færð á vegum getur haft mikil áhrif á skólaakstur
Ekki er verið að krefjast þess að vegirnir séu alltaf auðir og þurrir. Það er hins vegar eðlileg krafa að öryggi barna og skólaakstur hafi vægi þegar ákveðið er hvaða daga vegirnir eru þjónustaðir. Einnig er spurning hvernig bílstjóri skólabílsins á að bregðast við ef veruleg snjókoma eða hálka verður á þriðjudegi. Á skólabílstjórinn að treysta á að færðin verði góð, að þetta sleppi? Á hann að kalla út þjónustu þegar vandamálið er komið upp? Og hver tekur þá ákvörðun um úrbætur? Þetta eru ekki óþarfa spurningar. Þetta snýst um öryggi barna og annarra vegfarenda, ábyrgð og raunhæft skipulag vetrarþjónustu.
Laufey og Tinna Rut
spara í vetrarþjónustu. Og þá sérstaklega með tilliti til þess að skólabíllinn þarf að fara 12–14 ferðir með börn um þessa vegi flesta virka daga. Öryggi vegfarenda á ekki að ráðast af því hvaða vikudagur er.
Vegagerðin þarf því að endurskoða fyrirhugað fyrirkomulag á vegum 99 og 987 og taka sérstaklega tillit til umfangs skólaakstursins sem og annars aksturs. Það er erfitt að sjá rökin fyrir því að
Íslensk vetrarfærð tekur ekki mið af vikudögum. Snjókoma, hálka og skafrenningur geta gert vegina varhugaverða á skömmum tíma. Það verður því að taka mið af raunverulegri notkun veganna þegar vetrarþjónusta er skipulögð. Það hlýtur að vera sérstaklega mikilvægt þegar um skólaakstur barna er að ræða.
10 EYSTRAHORN
Einn af skólabílunum sem sjá um skólaakstur í sveitarfélaginu
Laufey Guðmundsdóttir Tinna Rut Sigurðardóttir
ATVINNA Velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir 100% stöðu við stuðningsþjónustu aldraðra
STYRKTARAÐILD Engin lágmarksupphæð
Hæfniskröfur: Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi. Hreint sakavottorð Bílpróf
DÆMI UM UPPHÆÐIR:
1.500 kr. á mánuði
2.500 kr. á mánuði
Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í 100% stöðu við stuðningsþjónustu aldraðra. Meginmarkmið starfsins er að aðstoða þjónustunotendur við heimilishald og draga úr félagslegri einangrun. Áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir einkalífi, heimili einstaklings og fjölskyldu hans. Unnið er eftir stefnu Þjónandi leiðsagnar. Starfið er unnið í dagvinnu.
3.500 kr. á mánuði
Kíktu á eystrahorn.is og skráðu þig eða hringdu í síma 867 6604
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu. Umsóknir skulu sendar á netfangið bessy@hornafjordur.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni og eru öll kyn hvött til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 12. október 2026
Lýðheilsa og virkni, liðsheild og seigla Nýheimar 15. október kl. 20:00 Kraftmikill og innihaldsríkur fyrirlestur og fræðsla sem byggir á áratuga reynslu Ólafs Stefánssonar úr íþróttaheiminum, sálfræði og heimspeki. Liðsheild og seigla: Hvernig byggjum við upp samheldinn hóp, virkjum drifkraftinn, tæklum mótlæti og tökumst á við áskoranir? Íþróttir og tómstundir: Hvernig eflum við áhuga, sjálfstraust, sjálfsmynd og mótlætisþol barna og unglinga? Menntun: Hvernig virkjum við sköpunargáfu, fókus og færni? Lýðheilsa og aðgerðir: Hvernig byggjum við upp hraust, hresst og vel virkt samfélag?
FYRIRLESTUR OG ÖRVINNUSTOFA FYRIR ALLA ÍBÚA
EYSTRAHORN
11
ÓMETANLEGT AÐ GETA SKROPPIÐ HEIM Aðsend grein: HeimaHöfn
Vorið 2017 útskrifaðist Elín Ása Heiðarsdóttir úr FAS og hóf í kjölfarið nám við Háskóla Íslands. Þaðan lauk hún BS-námi í stærðfræði og stærðfræðimenntun og bætti svo við sig MT-gráðu í menntun framhaldsskólakennara.
Elín Ása þegar hún lauk kennsluréttindum í framhaldsskóla
Hún er nú búsett á Egilsstöðum ásamt manni sínum og ársgömlum syni. Tengslin heim eru þó sterk: “Ég bý ekki lengur þar, en Hornafjörður er enn stór hluti af því hver ég er” segir Elín Ása.
AFLEYSINGASTAÐA LEIDDI TIL FLUTNINGA AUSTUR Á HÉRAÐ Elín Ása var enn í námi þegar henni bauðst afleysingastaða við Menntaskólann á Egilsstöðum. Skólinn bauð íbúðarhúsnæði til leigu sem auðveldaði ákvörðun um flutninga. “Við ákváðum að prófa að flytja austur þótt við þekktum þar nánast engan og
12 EYSTRAHORN
hefðum lítið bakland. Til að byrja með ætluðum við bara að búa hér í eitt ár, sem varð síðan að tveimur og áður en við vissum af voru árin orðin rúmlega fimm. Fólkið í kringum okkur tók vel á móti okkur og studdi okkur við að finna okkar stað í samfélaginu. Smám saman höfum við því byggt okkur upp gott líf á Egilsstöðum.” Kennaranáminu lauk Elín Ása í fjarnámi, samhliða starfi sínu sem stærðfræðikennari.
STÆRÐFRÆÐIKENNSLAN FJÖLBREYTT OG GEFANDI Elín Ása hefur fengið tækifæri til að
kenna flesta stærðfræðiáfanga sem Menntaskólinn á Egilsstöðum býður upp á, allt frá grunnáföngum í algebru til sérhæfðari áfanga í stærðfræðigreiningu og tölfræði. “Þessi fjölbreytni hentar mér mjög vel. Engar tvær annir eru alveg eins og í starfinu felast stöðugt nýjar áskoranir og tækifæri til að læra og þróast. Mér finnst líka gefandi að fá að kynnast nemendum og fylgjast með þeim öðlast aukið sjálfstraust í námi. Mér líður mjög vel í starfi og ég er gríðarlega heppin með samstarfsfólk og yfirmenn.” Í tengslum við kennsluna í ME verður Elínu Ásu gjarnan hugsað til námsáranna í FAS. “Skólarnir eru líkir að mörgu leyti, ekki
síst vegna nálægðarinnar milli nemenda og kennara. Ég hugsa því oft hlýlega til þeirra frábæru kennara og fyrirmynda sem ég átti í FAS og sé betur með hverju árinu hversu mikil áhrif þau höfðu á mig. Ég held að sú reynsla hafi meðal annars mótað mig sem kennara og haft áhrif á hvernig ég vil sjálf mæta nemendum mínum.”
TENGSLIN VIÐ HORNAFJÖRÐ MIKILVÆG Elín Ása segir uppvaxtarárin á Höfn hafa mótað sig á margan hátt. Hún hafi snemma lært að meta náin tengsl við fjölskylduna og nærsamfélagið.
4. okt. kl. 11:00
Bleik messa í Hafnarkirkju Súpa í boði eftir messu
“Ég ólst upp með ömmu og afa hinum megin við götuna og samveran með þeim er mér sérstaklega dýrmæt. Þau ólust upp á Mýrum og í Suðursveit og þegar ég var barn fór ég mikið með þeim um sveitirnar, í fjallgöngur, berjamó og steinaleit. Þannig urðu tengslin við náttúruna og söguna á svæðinu snemma hluti af mér. Ég er enn mikið náttúrubarn og sæki bæði gleði og ró í útiveru.”
18. okt. kl. 11:00
Sunnudagaskóli
18. okt. kl. 17:00
Uppskerumessa í Bjarnaneskirkju Kjötsúpa í boði eftir messu
Nándin í samfélaginu hafði mikil áhrif á Elínu Ásu. Að alast upp í litlu samfélagi telur hún hafa kennt sér að skilja mikilvægi þess að fólk líti eftir hvert öðru og leggi sitt af mörkum.
Veganestið sem ég tek með mér frá Hornafirði felst ekki síst í sterkri tilfinningu fyrir samfélagi, umhyggju fyrir fólkinu í kringum mig og djúpum tengslum við náttúruna.
REGLULEGA Á HEIMASLÓÐUM
26. okt. Samverustund með kl. 13:00 eldri borgurum í Hafnarkirkju
Verið velkomin til kirkju Sjá nánar á Facebook þegar nær dregur Birt með fyrirvara um breytingar
OPNUNARTÍMI SUNDLAUGAR HAFNAR
Að mati Elínar Ásu er mikill kostur hversu auðvelt er að ferðast á milli Hafnar og Egilsstaða. Fjölskyldan fer reglulega heim í Hornafjörð og viðheldur nánum tengslum við ættingjana þar. Að þessu leyti hentar þeim betur að búa á Héraði en á höfuðborgarsvæðinu. “Mér finnst ómetanlegt hversu stutt er á milli Egilsstaða og Hornafjarðar og hversu auðvelt er að skreppa heim um helgar eða dvelja þar lengur. Þegar ég kem heim skiptir mig mestu máli að verja tíma með fjölskyldunni og fólkinu mínu. Það er fyrst og fremst fólkið sem heldur tengslunum við staðinn lifandi.”
Mánudaga til föstudaga
Til viðbótar við hefðbundnar fjölskylduferðir í heimahagana hefur Elín Ása einnig ferðast um svæðið með samstarfsfólki sínu.
Laugardaga og sunnudaga
“Í vinnunni erum við nokkur sem höfum búið á Höfn og tölum gjarnan um staðinn og árin okkar þar. Mér finnst gaman að segja samstarfsfólki mínu frá lífinu í Hornafirði og á síðustu árum hef ég skipulagt ferðir bæði á Höfn og í Lónið fyrir starfsmannafélag skólans. Ferðirnar hafa vakið mikla lukku og mér hefur þótt sérstaklega ánægjulegt að fá að kynna svæðið fyrir öðrum.”
6:45—21:00 10:00—19:00 Velkomin í Sundlaug Hafnar www.hornafjordur.is
EYSTRAHORN
13
ATVINNUSTEFNA VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐS TILRAUNIN SEM BROTLENTI Aðsend grein: Laufey Guðmundsdóttir
HVENÆR ER MISHEPPNUÐ TILRAUN ORÐIN ÓNÝT? Þessa spurningu er tímabært að spyrja um atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs. Til margra ára hefur verið talað um að náttúruvernd og atvinnustarfsemi geti farið saman og að þjóðgarðurinn eigi að styrkja byggð og atvinnulíf í nágrenni sínu. Þetta er ekki bara falleg hugsjón. Það er eitt af lögbundnum markmiðum þjóðgarðsins að leitast við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni hans og lögin gera jafnframt ráð fyrir samræmingu starfsemi rekstrarsvæða þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn hefur sjálfur sagt að atvinnustefnan eigi að skapa grundvöll fyrir samstarfi við atvinnulífið og að tryggja þurfi sanngjarna niðurstöðu fyrir þá sem þegar veita þjónustu innan þjóðgarðsins. En hvernig hefur þetta tekist?
LEYFISVEITINGAR, HÆFNI OG REYNSLA Á suðursvæði þjóðgarðsins hafa atvinnurekendur árum saman þurft að sækja sérstaklega um heimild til atvinnustarfsemi og standast umfangsmiklar kröfur um hæfni, fagmennsku, öryggi, búnað og verklag. Það er eðlilegt þegar um viðkvæma náttúru og öryggi fólks er að ræða. En þegar atvinnurekandi þarf að leggja fram umfangsmikil gögn, uppfylla ýmis skilyrði og sæta eftirliti – en fær síðan jafnvel aðeins skammtímasamning um starfsemina – er rétt að spyrja hvort kerfið sé að skapa þá uppbyggingu sem atvinnustefnan á að stuðla að.
Laufey Guðmundsdóttir
á vettvangi gríðarlegu máli. Þekking á veðri, landslagi, jöklum og aðstæðum verður ekki öll til í kennslustofu. Hún verður til með vinnu á vettvangi. Því hlýtur reynsla, staðgóð þekking á svæðinu og ferill viðkomandi að vega þungt þegar hæfni er metin. Prófgráða má ekki sjálfkrafa taka fram yfir áratuga reynslu og þekkingu. Það á að meta hvort tveggja – menntun og reynslu.
UMSÓKNARFERLIÐ Umsóknir vegna framkvæmda geta verið umfangsmiklar og tímafrekar. Rafræna gáttin tekur auk þess við afar takmörkuðu gagnamagni – svo takmörkuðu að ljósmynd í þokkalegum gæðum getur reynst of stór til að hægt sé að senda hana inn. Svo kemur biðin - allt að 30 virkir dagar.
Í leyfisferlinu skiptir menntun máli, en hún er ekki eina mælistikan á hæfni.
Í atvinnugrein þar sem veður, árstíðir og stuttur framkvæmdatími skipta miklu máli getur bið í allt að sex vikur haft veruleg áhrif á rekstur. Afgreiðslutíminn verður sjálfur hluti af óvissunni.
Í starfsemi við og á jöklum, fjöllum og viðkvæmri náttúru skiptir áratuga reynsla
Skilvirk stjórnsýsla á að hjálpa atvinnulífinu að uppfylla reglurnar – ekki
14 EYSTRAHORN
verða enn ein hindrunin sem fyrirtækin þurfa að komast yfir. Sama á við um samningstímann. Á suðursvæði hafa samningar um atvinnustarfsemi árum saman verið gerðir til skamms tíma, jafnvel eins árs í senn. Hvernig á að byggja upp mannauð þegar ekki er ljóst hvort starfsemin verður leyfð árið eftir? Hvernig á að fjárfesta í húsnæði, tækjum og búnaði þegar rekstrargrundvöllurinn er ótryggur? Skammtímaóvissa getur haft áhrif á vilja og getu fyrirtækja til fjárfestinga. Það er erfitt að gera miklar kröfur um fagmennsku, öryggi og uppbyggingu ef rekstrarumhverfið sjálft er ófyrirsjáanlegt.
HVAR ER JAFNRÆÐIÐ? Suðursvæðið hefur árum saman búið við sérstakt leyfisfyrirkomulag og umfangsmiklar kröfur til atvinnustarfsemi, á meðan fyrirkomulagið er annað á öðrum svæðum þjóðgarðsins. Af hverju eiga atvinnurekendur á einu
Vélsleðaferðir eru ein af þeim afþreyingum sem ferðaþjónustufyrirtæki Laufeyjar býður upp á
svæði að búa við annað rekstrarumhverfi en þeir sem starfa á öðrum svæðum innan sama þjóðgarðs?
eðlilegum hraða og sömu grundvallarsjónarmið gildi um atvinnulíf innan alls þjóðgarðsins.
Aðstæður og starfsemi geta vissulega verið ólíkar. En ef reglur og kvaðir eru mismunandi þarf að vera hægt að útskýra muninn með málefnalegum og skiljanlegum hætti. Það verður enn mikilvægara þegar lögin leggja áherslu á samræmingu í starfsemi rekstrarsvæða.
Við þurfum lengri og fyrirsjáanlegri samninga, skýrar og samræmdar reglur, skilvirkara umsóknarferli og raunverulegt jafnræði milli rekstrarsvæða.
Náttúruvernd og atvinnulíf geta farið saman. Náttúruvernd þarf að vera öflug, en hún þarf ekki að vera andstæð atvinnulífinu. Þeir sem starfa innan þjóðgarðsins eru mikilvægir samstarfsaðilar í verndun svæðisins. Þeir vinna á vettvangi, þekkja aðstæður og hafa mikla hagsmuni af því að náttúran verði fyrir eins litlum áhrifum og mögulegt er. Málið snýst því ekki um að draga úr kröfum um náttúruvernd. Það snýst um að kröfurnar séu sanngjarnar, hæfni sé metin út frá bæði menntun og reynslu, umsóknir séu afgreiddar með
Atvinnurekendur eiga að þurfa að standast strangar kröfur þegar náttúra og öryggi eru annars vegar. En kerfið verður líka að standast kröfur um skilvirkni, sanngirni og fyrirsjáanleika. Atvinnustefna sem á að styrkja byggð en gerir uppbyggingu óþarflega erfiða þarf að endurskoða. Ekki vegna þess að gerðar séu kröfur – heldur vegna þess að kröfurnar verða að fylgja raunverulegum aðstæðum hvers svæðis. Annars er atvinnustefnan sjálf orðin hindrunin. Greinarhöfundur á og rekur ferðaþjónustufyrirtæki í AusturSkaftafellssýslu.
Íshellaferðir eru mjög vinsælar
EYSTRAHORN
15
Uppbyggingarsjóður Suðurlands
Ert þú með hugmynd sem getur eflt atvinnulíf, nýsköpun og/eða menningu á Suðurlandi?
Umsóknarfrestur 21. október, kl. 14:00 Nánari upplýsingar og ráðgjöf
sass.is
Hlaupaæfingar vetur 2026-27 Þriðjudagar, kl. 16.30 upphafsstaður breytilegur
HLAUPAHÓPUR HORNAFJARÐAR
5.000 kr fyrir haustönn Skráning í Abler Fyrir hverja? Byrjendur, hlabbara og lengra komna
GSM: 888 5979 (Helga) hlaupahopurhornafjardar@gmail.com
ÓSKAST TIL STARFA SEM FYRST ATVINNA FRÍSTUNDALEIÐBEINANDI Um er að ræða 37,25% starf í Kátakoti frá 13:10 - 16:15 HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ Sinna uppeldi og menntun samkvæmt starfslýsingu og aðstoða nemendur við athafnir daglegs lífs Styðja við og styrkja jákvæða hegðun nemenda og sjálfstæði Efla félagsfærni og jákvæða sjálfsmynd nemenda Sjá til þess að umhverfi sé öruggt, uppbyggilegt, styðji við þroska og virka þátttöku nemenda
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Stundvísi, frumkvæði og metnaður í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Góð íslenskukunnátta (B1 í evrópska tungumálarammanum) Hreint sakavottorð (þarf að skila með umsókn) Laun eru greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknum um starf skal skilað skriflega til skólastjóra fyrir 8. október n.k. með upplýsingum um menntun, réttindi, starfsreynslu og meðmælendur. Umsóknareyðublað er á heimasíðu skólans: www.gs.hornafjordur.is
16 EYSTRAHORN
Frekari upplýsingar gefur Þórdís Þórsdóttir skólastjóri í síma 4708440 eða í síma 6986019 og á netfanginu thordisth@hornafjordur.is
AÐ LOKNU UMDÆMISÞINGI KIWANIS Á HÖFN Aðsend grein: Sigurður Einar Sigurðsson, umdæmisstjóri Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar 2025–2026
Það var sannkölluð hátíð á Höfn helgina 11. – 13. september þegar um 200 félagar og gestir víðsvegar af landinu komu saman, deildu hugmyndum, fræddust, skemmtu sér og nutu þess að vera saman. Einnig komu 11 Færeyingar, en þeir eru hluti af okkar umdæmi. Það er alltaf frábært að sjá kraftinn sem verður til þegar jákvætt og velviljað fólk kemur saman með sameiginlegt markmið: að bæta heiminn fyrir börnin. Það var einstaklega ánægjulegt að fá til okkar Michael Mulhaul, heimsforseta Kiwanis International, og eiginkonu hans Lauru Mulhaul, ásamt Jo Schwartz, ráðgjafa umdæmis 2026–2027. Nærvera þeirra gerði þingið enn hátíðlegra og sýndi jafnframt þau sterku tengsl sem við eigum innan alþjóðlegrar Kiwanishreyfingar. Á þinginu var veittur 500.000 króna styrkur til Félags langveikra barna Verndarvængs á Hornafirði og veitti séra Gunnar Stígur Reynisson styrknum móttöku. Enn fremur fengu Einstök börn 1.000.000 og er það upphaf K-dagssöfnunar sem nánar verður auglýst síðar. Á síðasta K-degi fyrir tveimur árum söfnuðust um 80 milljónir og rann styrkurinn til Einstakra barna. Síðast en ekki síst veitti Kiwanisklúbburinn Ós styrk upp á eina og hálfa milljón til að byggja upp starfsnám við framhaldsskólann og veitti Guðjón R. Jónasson skólameistari FAS honum viðtöku.
Hannes Halldórsson forseti Kiwanisklúbbsins Óss og Eva Lind Ingvarsdóttir forseti Kiwanisklúbbsins Jökladísa
Heimsforseti Kiwanis International Michael Mulhaul, umdæmisstjóri Sigurður Einar Sigurðsson ásamt Jo Schwartz, ráðgjafa umdæmis 2026–2027 og verðandi umdæmisstjóra Eið Ævarssyni
Einn af hápunktum þingsins var án efa vígsla nýs Kiwanisklúbbs, Jökladísa, sem er kvennaklúbbur á Höfn. Núna eru 18 félagar í klúbbnum og þær vilja gjarnan bæta fleirum við. Áhugasamar konur á Hornafirði eru hvattar til að senda forseta Jökladísanna, Evu Lind póst á jokladisir@ kiwanis.is eða til Amor sem er kjörforseti klúbbsins á netfangið amor@kiwanis.is. Ég óska Jökladísum innilega til hamingju og býð þær velkomnar í Kiwanisfjölskylduna. Ég er sannfærður um að þær eiga eftir að láta mikið til sín taka. Um leið vil ég hvetja alla klúbba til að halda áfram að leita að nýjum félögum. Galaveislan á laugardagskvöldinu var svo sannarlega eftirminnileg. Hljómsveitin Ær og Kýr sá um tónlistina og hélt uppi fjörinu, en Sigurjón Andrésson, fyrrverandi bæjarstjóri Hornafjarðar, stýrði veislunni af miklum myndarskap. Hann tók nokkur lög með hljómsveitinni og gestir tóku undir í söngnum og þá lifnaði dansgólfið við. Það var greinilegt að Kiwanisfélagar kunna ekki aðeins að vinna saman – þeir kunna líka að skemmta sér saman!
Það er ekki hægt að minnast á þingið án þess að þakka sérstaklega þeim sem lögðu á sig ómælda vinnu við undirbúning og framkvæmd þess. Jökladísir og félagar í Kiwanisklúbbnum Ós lögðu gríðarlega mikið á sig til að þingið gæti orðið að veruleika og eiga þau miklar þakkir skildar. Sérstaklega vil ég færa Þingnefndinni þakkir en í henni voru: Stefán Brandur Jónsson, formaður, Kristján Vilhelm Gunnarsson, Kristjón Elvar Elvarsson, Jón Áki Bjarnason og Geir Þorsteinsson. Á mínu starfsári 2025–2026 var kjörorðið: „Best fyrir börnin hjá Kiwanis.“ Það á vel við því þegar við fáum nýja félaga, styðjum barn eða fjölskyldu eða vinnum saman að góðu verkefni þá erum við að gera best fyrir börnin hjá Kiwanis. Kærar þakkir fyrir vinnuna og samveruna.
frábært
EYSTRAHORN
17
þing,
VIÐBURÐARDAGATAL HVAÐ ER UM AÐ VERA? Fimmtudagur 1. október
15:00 Afmælisboð Hótels Hafnar í tilefni 60 ára afmælis. Kaffi, kaka og léttar veitingar í boði 15:30 USK teiknar saman á Hótel Höfn í tilefni 60 ára afmælis hótelsins - allir velkomnir að koma og teikna saman 19:30 Félagsvist Félags eldri Hornfirðinga í Ekru. Fyrsta kvöld af þremur, allir velkomnir 20:00 Haustfundur kvenfélagsins Vöku, í Mánagarði 20:30 Æfing Kórals í Sindrabæ. Kórinn er opinn öllum sem vilja taka þátt.
Laugardagur 3. október
Þriðjudagur 20. október
10:00 Borgarasamtal um netöryggi og upplýsingaóreiðu í Ekrusalnum á vegum Félags eldri Hornfirðinga 16:00 POP-UP á Verbúðarbarnum – Brá Verslun, Bambam House / Nordea Iceland, Heimaskipulag, EliteBeautyLashes og Era Sport til kl. 20:00
Fimmtudagur 22. október
18:00 Tungumálakaffi í Gömlubúð - Spjöllum saman á íslensku!
Föstudagur 23. október
19:00 Bónusdeild karla, Sindri - Tindastóll í Icelagoonhöllinni
13:00 POP-UP á Verbúðarbarnum – Barnavörur frá Melo, Whitenoice, Silver Cross, Dóttir og son og Kara Kids til kl. 17.00
Laugardagur 24. október
Sunnudagur 4. október
Sunnudagur 25. október
11:00 Bleik messa í Hafnarkirkju. Súpa í boði eftir messu 16:00 2. deild karla, Máni - Reykdælir í Icelagoonhöllinni
Þriðjudagur 6. október
19:30 Kósýkvöld í Vöruhúsinu á vegum Slysavarnardeildarinnar Framtíðar, til kl. 22:00. Allir velkomnir
Fimmtudagur 8. október
15:00 Opnun myndlistarsýningar á Verbúðarbarnum. Sigurborg Helgadóttir opnar sýninguna HEIMÞRÁ. Allir velkomnir 11:00 Afmælishátíð Þórbergsseturs á Hala í tilefni 20 ára afmælis, dagskrá til kl. 17:00 16:00 2. deild karla, Máni - Afturelding í Icelagoonhöllinni
Mánudagur 26. október
13:00 Samverustund með eldri borgurum í Hafnarkirkju Hrekkjarvökuföndur á bókasafninu á opnunartíma bókasafnsins
13:00 Opið hús í Skjólgarði til kl. 15:00. Allir velkomnir að koma og skoða nýtt húsnæði 18:00 Tungumálakaffi í Gömlubúð - Spjöllum saman á íslensku! 19:15 Bónusdeild karla, Sindri - ÍR í Icelagoonhöllinni 19:30 Tölum saman um líðan og tengsl – Barnaheill og Geðhjálp í Nýheimum til kl. 21:00. 19:30 Félagsvist Félags eldri Hornfirðinga í Ekru. Annað kvöld af þremur, allir velkomnir
Þriðjudagur 27. október
Mánudagur 12. október
Föstudagur 30. október
20:00 Kynningarfundur á Söngleikasprengju Leikfélags Hornafjarðar í Sindrabæ. Öll 16 ára og eldri velkomin
Miðvikudagur 14. október
20:00 XD Hornafirði með bæjarmálafund í Sjálfstæðishúsinu
Fimmtudagur 15. október
Hrekkjarvökuföndur á bókasafninu á opnunartíma bókasafnsins
Miðvikudagur 28. október
15:00 Bókaklúbbur á bókasafninu Hrekkjarvökuföndur á bókasafninu á opnunartíma bókasafnsins
Fimmtudagur 29. október
Hrekkjarvökuföndur á bókasafninu á opnunartíma bókasafnsins Hrekkjarvökuföndur á bókasafninu á opnunartíma bókasafnsins
Laugardagur 31. október
20:30 Hrekkjavökukvöld Verbúðarbarsins. Hrekkjavökukokteilar og Happy Hour til kl. 23:30 Hrekkjarvökuföndur á bókasafninu á opnunartíma bókasafnsins
16:00 Gervigreindarnámskeið með Sindra Ragnarssyni í Nýheimum. Verð 19.900 kr. Skráning nauðsynleg 16:30 Ganga Ferðafélagsins í tilefni geðræktar. Genginn um 5 km hringur frá tjaldsvæðinu um Eystri-Ægissíðu og nýja stíginn. Allir velkomnir. 19:30 Félagsvist Félags eldri Hornfirðinga í Ekru. Þriðja kvöld af þremur, allir velkomnir. 20:00 Liðsheild og seigla, íþróttir og menntun – fyrirlestur Ólafs Stefánssonar í Nýheimum til kl. 21:30
Sunnudagur 1. nóvember
Laugardagur 17. október
Sunnudagur 8. nóvember
11:00 USK teiknar saman á Þórbergssetri - allir velkomnir að koma og teikna saman 13:00 Lína Langsokkur 80 ára - Lesum og leikum á Sjónarhóli á bókasafninu 15:00 10. flokkur drengja, Sindri/Máni - Hamar/Þór Þ. í Icelagoonhöllinni. Frítt inn
Sunnudagur 18. október
11:00 Sunnudagaskóli í Hafnarkirkju 12:00 10. flokkur drengja, Sindri/Máni - Hamar/Þór Þ. í Icelagoonhöllinni. Frítt inn 17:00 Uppskerumessa í Bjarnaneskirkju. Kjötsúpa í boði eftir messu
18 EYSTRAHORN
15:00 Dansiball í Ekru fyrir eldri Hornfirðinga. Ekrubandið spilar
Föstudagur 6. nóvember
Nornaþing með Svövu Bjarna í Sjálfstæðishúsinu á Höfn. Skráning nauðsynleg.
Laugardagur 7. nóvember
Reiki heilunarnámskeið 1. og 2. stig með Svövu Bjarna í Sjálfstæðishúsinu á Höfn. Skráning nauðsynleg. Reiki heilunarnámskeið 1. og 2. stig með Svövu Bjarna í Sjálfstæðishúsinu á Höfn.
EYSTRAHORN STYRKTARAÐILD Engin lágmarksupphæð
Skannaðu QR-kóðann eða hringdu í síma 867 6604
OKTÓBER FASTIR LIÐIR Mánudagur
Heyrnarþjónusta síðan 2007
20:50 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn
534-9600 heyrn.is
Þriðjudagur
10:30 Krílakaffi á bókasafninu 16:30 Æfing hjá Hlaupahópi Hornafjarðar. Breytilegur upphafsstaður.
Miðvikudagur
13:00 Prjónakaffi á bókasafninu til kl. 15:00
Fimmtudagur
13:30 Hreyfing í vatni hjá eldri borgurum í Sundlaug Hafnar 16:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl. 18:00 16:30 Opið í Hirðingjunum til kl. 18:30
Laugardagur
13:00 Opið í Hirðingjunum til kl. 15:00 fyrsta laugardag hvers mánaðar 14:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl. 16:00 fyrsta laugardag hvers mánaðar
Sunnudagur
10:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn 13:00 Samkoma í Hvítasunnukirkjunni á Höfn
Hirðingjarnir nytjamarkaður Opið alla fimmtudaga frá kl. 16:30 - 18:30 & fyrsta laugardag í hverjum mánuði frá kl. 13:00 - 15:00
Er
VIÐBURÐUR
framundan?
OPNUNARTÍMAR Á HÖFN 2026
Sendu okkur línu í viðburðardagatalið eystrahorn@eystrahorn.is
OKTÓBER
NÓVEMBER
12. - 14.
16. - 18.
Tímabókanir á netinu og í síma 570-9090 Frumherji er við Sæbraut 5 Frumherji bifreiðaskoðun - Fyrir mikilvægasta fólkið
12. Þing ASÍ-UNG
VILTU TAKA ÞÁTT? Hafðu samband: birkir@asa.is
HVAÐ SITUR EFTIR ?
Kjör, skattar og framtíðartækifæri ungs fólks
AFL leitar að tveimur fulltrúum úr hópi félagsfólks undir 36 ára aldri til þátttöku á 12. þingi ASÍ-UNG.
5.–6. nóvember HÓTEL REYKJAVÍK ASKJA
UMSÓKNARFRESTUR 10. OKTÓBER 2026 EYSTRAHORN
19
HÓTEL HÖFN Í SEXTÍU ÁR Aðsend grein: Gísli Sverrir Árnason
Í dag, 1. október 2026, eru sextíu ár frá því að Hótel Höfn tók til starfa. Vorið 1965, nánar tiltekið á þjóðhátíðardegi Norðmanna 17. maí, hófust byggingaframkvæmdir og rúmu ári síðar, 1. október 1966 var fyrsti áfanginn tekinn í notkun. Það var bygging með veitingasal og eldhúsi á efri hæð en gestamóttöku, geymslum og starfsmannaaðstöðu á neðri hæð. Annar áfangi, 20 herbergja álma á þremur hæðum, var tilbúinn 17. júní 1967 og fjórum árum síðar lauk byggingu hótelsins þegar önnur 20 herbergi bættust við. Stofnendur og eigendur hótelsins voru tvenn hjón; Árni Stefánsson og Svava Sverrisdóttir og Þórhallur Dan Kristjánsson og Ólöf Sverrisdóttir. Þórhallur lést árið 1975 en hefði orðið 100 ára í dag, 1. október. Árni lést 2008 en hefði orðið 100 ára 10. júlí á næsta ári. Ólöf varð 99 ára 15. september síðastliðinn og Svava systir hennar varð 93 ára 30. janúar. Auk hjónanna tveggja var þriðja systirin, Ingibjörg Sverrisdóttir einn af máttarstólpum rekstursins frá upphafi. Hún bjó í Reykjavík og vann lengst af sem sjúkraliði á Landspítalanum en kom alla tíð austur á Hornafjörð í sumarfríum og lét þá til sín taka við reksturinn. Ingibjörg lést 2018. Aðdraganda þess að hótelið var byggt má meðal annars rekja til þess að haustið 1959 tóku Árni og Þórhallur að sér rekstur á Hótel Skálholti, þar sem nú er gistiheimilið Hvammur, með samkomulagi við Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, eiganda hússins. Innan fárra ára var húsnæðið orðið of lítið til þess að hægt væri að sinna vel þeim fjölda gesta sem komu til Hornafjarðar árlega. Þeir félagarnir fengu því úthlutað lóð hjá hreppnum til byggingar nýs hótels 1964 og hófust handa við undirbúninginn. Lóðin var í ræktunarlandi Sigurbjargar Gísladóttur tengdamóður þeirra en Hafnarkirkja er einnig byggð á skika úr sama landi. Frá upphafi var ákveðið að hafa hótelið hið glæsilegasta
20 EYSTRAHORN
Hótel Höfn í byggingu 1966
og standast nútíma kröfur vaxandi fjölda ferðafólks. Dr. Maggi Jónsson var ráðinn arkitekt hússins og Þorgeir Kristjánsson, bróðir Þórhalls, var byggingameistari þess. Starfsemi hótelsins óx jafnt og þétt. Auk veitinga- og gistiþjónustu stóð hótelið um árabil fyrir skoðunarferðum að Fláajökli, út á Stokksnes og alla leið í Skaftafell. Til voru þrjár rútur til þeirra ferða og einnig rak hótelið bílaleigu um
hríð. Áður en hringvegurinn var kláraður 1974 buðu ýmsar ferðaskrifstofur upp á hringferðir fyrir erlent ferðafólk og var lagt af stað frá Reykjavík en endastöðin var á Höfn. Eftir tveggja daga dvöl þar var flogið með hópinn til Reykjavíkur þaðan sem nýr hópur kom einnig til þess að fara með rútunum til baka austur og norður um land til borgarinnar. Við opnun hringvegarins jukust þessar hringferðir til muna.
Systurnar (frá vinstri) Ólöf, Ingibjörg og Svava Sverrisdætur
Árni Stefánsson t.v. og Þórhallur Dan Kristjánsson t.h. hótelstjórar
Margir einstaklingar, jafnt heimafólk sem aðkomufólk, lögðu hótelrekstrinum lið með vinnuafli sínu allt frá upphafi. Þá var ómetanlegt hve vel íbúar Hornafjarðar tóku hótelinu og nýttu sér þjónustu þess. Þessu öllu fólki eru Ólöf og Svava ævinlega þakklátar í dag. Eftir rúmlega 30 ára uppbyggingu og rekstur tóku nýir aðilar við keflinu á Hótel Höfn árið 1996 og frumkvöðlarnir drógu sig í hlé. Þær systur færa núverandi eigendum og starfsfólki hótelsins hamingjuóskir með 60 ára afmæli Hótels Hafnar og óska þeim velfarnaðar um ókomin ár. Við samantektina er stuðst við Sögu Hafnar II. bindi eftir Arnþór Gunnarsson.
Þjónustustúlkur í sal, frá vinstri: Guðrún Þorsteinsdóttir, Olga Þórhallsdóttir, Ingibjörg Gísladóttir, Sigurbjörg Karlsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Helga Karlsdóttir og Hallbjörn Þórarinsson yfirkokkur. Myndin er tekin á upphafsárum hótelsins
Íshellatímabilið er hafið EYSTRAHORN
21
Rural households
are provided with three bins:
paper, plastic and mixed waste
Good sorting helps make sure that recyclable materials can actually be recycled and reduces the amount of waste that needs to go to landfill. A few simple sorting habits also help collections run smoothly. Please make sure that paper, plastic and mixed waste are placed in the correct bins. If a bin contains incorrectly sorted waste, it may not be emptied until the sorting has been corrected.
Paper & cardboard
Plastic
Clean · Dry · No plastic bags
Empty · Clean · No paper
Newspapers · Cardboard · Paper packaging · Milk and juice cartons Keep paper separate from plastic. Do NOT put paper or cardboard inside plastic bags. Flatten cardboard to save space.
Plastic packaging · Bags and film · Plastic Bottles and trays Empty and clean packaging before putting it in the bin. Remove food and other residues. Put small plastic items in a larger bag and tie it securely.
Mixed waste Nappies · Wet wipes · Vacuum bags · Cat litter · Disposable gloves Everything that doesn't belong in the recyclable fractions
What about these waste types? Deposit bottles & cans · Electronics · Hazardous waste · Textiles · Glass · Metals · Food waste Scan the QR code to access more information.
Guests staying at your property? Gistir ferðafólk hjá þér? Make sure clear sorting instructions are available to your guests. Download our sorting guide from the website using the QR code The guide can be shared and printed for visitors.
Gakktu úr skugga um að skýrar flokkunarleiðbeiningar séu aðgengilegar fyrir gesti. Sæktu flokkunarleiðbeiningar á vefnum með QRkóðanum Hægt er að hlaða niður leiðbeiningunum og deila þeim með gestum.
Winter is approaching - are your bins ready? Strong winds, snow and ice can make collection difficult. A few simple steps can prevent problems.
Secure your bins
Secure the lids
Keep bins secured so they don't blow over, blow away or become damaged.
Keep lids closed and secured to prevent waste from blowing out.
22 EYSTRAHORN
Keep access clear Make sure the collection crew can safely reach your bins, particularly in snow and icy conditions.
Need different bins? Too much space or not enough? Contact us if you need to change the number or size of your bins.
Sorpþjónusta í dreifbýli · 2/3
Heimili í dreifbýli eru með þrjár tunnur: fyrir
pappír, plast og blandaðan úrgang Rétt flokkun hjálpar til við að tryggja að endurvinnsluefni nýtist til endurvinnslu og dregur úr því magni úrgangs sem fer til urðunar. Nokkur einföld atriði við flokkun hjálpa einnig til við að sorphirðan gangi vel. Gætið þess að pappír, plast og blandaður úrgangur fari í réttar tunnur. Ef úrgangur er rangt flokkaður kann tunnan að vera skilin eftir ólosuð þar til flokkun hefur verið lagfærð.
Pappír og pappi
Plast
Hreint · Þurrt · Engir plastpokar
Tómt · Hreint · Enginn pappír
Dagblöð · Pappakassar · Pappírsumbúðir · Fernur
Blandaður úrgangur
Plastumbúðir · Plastpokar og filmur · Plastflöskur og bakkar
Haltu pappír aðskildum frá plasti. Ekki setja pappír eða pappa í plastpoka. Brjóttu saman pappakassa til að spara pláss.
Bleyjur · Blautþurrkur · Ryksugupokar · Kattasandur · Einnota hanskar
Tæmið umbúðir og fjarlægið matarleifar og önnur óhreinindi. Hreinsið umbúðir áður en þær fara í tunnuna. Setjið smærri plasthluti í stærri plastpoka og bindið vel fyrir.
Allt sem ekki á heima í endurvinnsluflokkunum
Hvað með þessa úrgangsflokka? Skilagjaldsskyldar flöskur og dósir · Raftæki · Spilliefni · Textíll · Gler · Málmar · Matarúrgangur Skannaðu QR-kóðann til að fá nánari upplýsingar. SKRÁNING OG BEIÐNIR REGISTRATION & REQUESTS
Nánari upplýsingar á netinu More information online
470 8000
Skannaðu til að sjá flokkunarleiðbeiningar, sorphirðudagatal, opnunartíma og nýjustu upplýsingar
afgreidsla@hornafjordur.is xiaoling@hornafjordur.is
Scan for the full sorting guide, collection dates, opening hours and latest updates
Veturinn nálgast – eru tunnurnar þínar tilbúnar? Vindur, snjór og hálka geta gert sorphirðu erfiðari. Nokkur einföld atriði geta komið í veg fyrir vandamál.
Tryggðu tunnurnar
Tryggðu lokin
Gakktu vel frá tunnum svo þær fjúki ekki um koll eða burt og verði ekki fyrir skemmdum.
Hafðu lokin lokuð og tryggð svo þau fjúki ekki upp og úrgangur dreifist ekki.
Tryggðu gott aðgengi Gakktu úr skugga um að sorphirðuaðilar komist örugglega að tunnum, sérstaklega í snjó og hálku.
Þarftu að breyta tunnunum? Of mikið pláss eða of lítið? Hafðu samband við okkur ef þú þarft að breyta fjölda eða stærð tunna. EYSTRAHORN
23
RANNSÓKN Á TUNGUMÁLANOTKUN Í HORNAFIRÐI Aðsend grein: Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Starfsmaður Gömlubúðar og mannfræðineminn Eugénie hlaut, ásamt Menningarmiðstöð Hornafjarðar, styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna í vor til að framkvæma rannsókn Eugénie á viðhorfi íbúa sveitarfélagsins til ensku í daglegu lífi. Niðurstöðurnar, sem kynntar voru á opnum fundi í Gömlubúð 14. september, eru áhugaverðar og upplýsandi fyrir samfélagið okkar en þær varpa ljósi á hvernig íslenskir og erlendir íbúar upplifa tungumálanotkun í samfélaginu. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar í Sveitarfélaginu Hornafirði og fólst í mannfræðilegri nálgun. Eugénie safnaði og skráði frásögnum íslenskra og erlendra íbúa til að rannsaka staðbundin viðhorf til tungumálanotkunar í sveitarfélaginu. Viðhorf til ensku reyndust fjölbreytt. Sumir íslenskir þátttakendur lýstu gremju yfir því að geta ekki alltaf notað íslensku, til dæmis í þjónustu eða á vinnustað. Aðrir töldu enskuna eðlilegan og gagnlegan hluta daglegra samskipta. Rannsóknin bendir til þess að það sé einkum sú krafa að skipta yfir í ensku sem geti valdið óþægindum, fremur en enska sem tungumál.
24 EYSTRAHORN
Sjónarhorn erlendra íbúa sýnir að enska gegnir oft lykilhlutverki þegar fólk kemur til landsins. Hún nýtist í vinnu og daglegu lífi og brúar bil. Sumir þátttakendur bentu á að íslenskunámskeið væru kennd á ensku og því þyrftu þeir fyrst að ná tökum á henni til að fóta sig í nýju samfélagi. Óvissa um hversu lengi fólk mun dvelja á Íslandi getur einnig haft áhrif á hvenær það leggur í íslenskunám.
Eugénie Parent
Rannsóknin vekur spurningar um hvernig styðja megi við íslensku án þess að gera lítið úr mikilvægi enskunnar fyrir samskipti og inngildingu. Niðurstöðurnar gætu nýst við að efla íslenskunám og tengsl milli íbúa. Eugénie hyggur á frekari rannsóknir um þetta brýna málefni og þakkar þátttakendum kærlega fyrir sitt framlag til verkefnisins. Niðurstöðurnar voru kynntar á opnum fundi í Gömlubúð
RÆKTUN SÆLKERASVEPPA Á HÖFN Aðsend grein: Agnar Jökull Imsland Arason, Mýsildalur
Á Höfn hefur áhugi á matvælaframleiðslu og náttúrulegum hráefnum orðið að litlu tilraunaverkefni í svepparækt. Verkefnið kallast Mýsildalur. Hugmyndin er að kanna hvernig hægt sé að rækta ferska matsveppi á Höfn með þeim aðstæðum, hráefnum og búnaði sem nærumhverfið býður upp á. Fyrstu skrefin voru einföld: plastfötur sem annars hefðu farið í endurvinnslu, heimagerð ræktunaraðstaða og óteljandi spurningar um af hverju sumt virkaði og annað ekki. Hver tilraun hefur vakið nýjar spurningar og aukið skilning minn á möguleikum svepparæktunar á Höfn. Uppskeran hefur hingað til verið góð og viðbrögð þeirra sem hafa smakkað sveppina afar jákvæð. Mýsildalur er þó enn fyrst og fremst tilraunaverkefni.
HORNFIRSKAR AÐSTÆÐUR Stór hluti verkefnisins felst í að prófa hvaða aðferðir henta við hornfirskar aðstæður. Smæð samfélagsins og staðsetningin hafa bæði reynst áskorun og uppspretta hugmynda. Í stað þess að kaupa allan búnað tilbúinn og flytja öll hráefni að hef ég aðlagað búnað og aðferðir að því sem er í boði hverju sinni. Tilraunir með lífræn hráefni og hliðarafurðir annarrar framleiðslu hafa vakið áhugaverðar spurningar. Með hverri tilraun kemur eitthvað nýtt í ljós, líka þegar niðurstaðan er ekki sú sem ég vonaðist eftir.
UPPSPRETTAN OG LÆRDÓMURINN Forvitnin kviknaði með ræktunarfötu frá Emmson sveppum, þar sem ostrusveppir voru ræktaðir úr notuðum kaffikorgi. Það vakti spurninguna: væri
Ostrusveppir úr einni af ræktunarfötum Mýsildals. Mynd: Mýsildalur
Skráning og undirbúningur fyrir eina af tilraununum. Mynd: Mýsildalur
hægt að nýta hornfirskar hliðarafurðir á svipaðan hátt? Stuttu síðar fór ég í nám hjá GroCycle um lágtækniræktun ostrusveppa og sæfða ræktun sælkerasveppa. Það varð upphafið að sambandi Mýsildals og GroCycle. Næstu átta vikur mun ég vinna beint með þeim að stefnumótun verkefnisins. Ég hef einnig verið í sambandi við og unnið með öðrum svepparæktendum á Íslandi. Það hefur verið dýrmætt að geta borið saman reynslu og hugmyndir.
HVAÐ KEMUR NÆST? Tíminn mun leiða í ljós hvert þróunarverkefni Mýsildals stefnir næst.
Ungir ostrusveppir í einni af tilraunaræktunum. Mynd: Mýsildalur
Eitt er þó víst: forvitni og aðlögun að nærumhverfinu verða leiðarljós Mýsildals. Þau sem vilja lesa meira um verkefnið geta heimsótt www.mysildalur.is. Þar eru upplýsingar um sveppina sem hafa verið í ræktun, fróðleikur um ferlið og myndir af því sem hefur tekist vel og því sem hefur farið úrskeiðis. EYSTRAHORN
25
NÁTTÚRUKRAKKAR Í HOFGARÐI Aðsend grein: Courtney Brooks, Sérfræðingur Náttúrustofu Suðausturlands
Nýlega heimsótti starfsmaður Náttúrustofu Suðausturlands nemendur í Grunnskólanum í Hofgarði og hélt þar náttúrufræðikennslu. Krakkarnir fengu að kynnast starfi náttúrustofunnar og prófa ýmsar aðferðir sem notaðar eru við náttúrurannsóknir. Dagurinn hófst á stuttri kynningu á starfi Náttúrustofu Suðausturlands og þeim fjölbreyttu verkefnum sem sérfræðingar stofunnar sinna. Meðal annars var sagt frá rannsóknum sumarsins á fuglum og gróðri og rætt um líffræðilega fjölbreytni og hvers vegna mikilvægt er að fylgjast með breytingum í náttúrunni. Að kynningu lokinni fóru nemendur út og prófuðu sjálf einfaldar aðferðir sem notaðar eru við rannsóknir og vöktun. Í gróðurverkefni var lagður út mælireitur og skoðað hvaða plöntur fundust innan hans og hvaða tegundir voru mest áberandi. Verkefnið gaf tilefni til að ræða hvernig gróður getur verið ólíkur milli svæða og hvaða þættir geta haft áhrif á tegundasamsetningu. Einnig var farið í verkefni tengt fuglarannsóknum. Verkefnið var sett upp með hliðsjón af rannsóknum Náttúrustofu Suðausturlands á skúmum, þar sem meðal annars eru hreiður og egg skoðuð og mæld á vettvangi. Blöðrur voru notaðar til að tákna fuglaegg svo nemendur gætu prófað einfalda útgáfu af sambærilegri athugun og rætt hvað getur haft áhrif á varpárangur og afkomu fugla. Alls tóku sjö nemendur þátt í deginum og sýndu þau verkefnunum mikinn áhuga. Það var gaman að sjá hvernig sumir tengdust sérstaklega gróðurrannsóknunum en aðrir fuglaverkefninu. Nemendurnir unnu saman að verkefnablöðum, notuðu mælitæki, skráðu athuganir og veltu fyrir sér hvað gæti verið að verki í náttúrunni og haft áhrif á gróðurfar og fuglalíf.
Courtney heldur kynningu fyrir nemendurna um verkefni Náttúrustofu Suðausturlands. Þau ræddu hvað felst í því að vera náttúrufræðingur og hvers vegna mikilvægt er að fylgjast með breytingum í náttúrunni
26 EYSTRAHORN
Nemendur við vettvangsvinnu í náttúrufræðikennslu. Hér eru nemendurnir að sinna gróðurvöktun. Þeir nota gróðurreit til að kanna hvaða plöntutegundir finnast á svæðinu
Markmiðið með deginum var að gefa nemendum innsýn í starf náttúrufræðinga og leyfa þeim sjálfum að prófa að skoða, mæla og skrá náttúruna í nærumhverfinu. Við hjá Náttúrustofu Suðausturlands þökkum nemendum og starfsfólki Grunnskólans í Hofgarði kærlega fyrir skemmtilegan og áhugasaman dag og vonum að við höfum kveikt enn meiri forvitni um náttúruna í nærumhverfinu.
Hér taka nemendurnir þátt í fuglavöktun. Þau eru að skrá gögnin svo þau geti borið þau saman
Fasteignasala Suðurlands KYNNIR TIL SÖLU
16 SÆTI Í BOÐI 16 SÆTI Í BOÐI
NÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR NÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR
Gervigreind Gervigreind Úr Úr spjalli spjalli til til verka verka
HLÍÐARTÚN 5 Mikið endurnýjað 5 herbergja einbýlishús á Höfn ásamt aukaíbúð í bílskúr. Góðir tekjumöguleikar!
147 m² 5 herbergi
BÓKAÐU SKOÐUN EÐA FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR: 483 3424 fastsud@gmail.com
Notar þú gervigreind helst til að spyrja Notar þú gervigreind helst til aðÁspyrja spurninga eða leita upplýsinga? spurninga eða leita námskeiðinu sýni égupplýsinga? hvernig hún Á getur námskeiðinu sýni ég hvernig hún þér getur tekið að sér verkefni og hjálpað í tekið að sér verkefni og hjálpað þér í vinnunni. vinnunni. Ég kynni tól eins og Codex, Claude Ég kynni tól eins og Codex, Code, Claude Cowork, GrokClaude Bot og sýni Code, Claude Cowork, Grok Bot ogúrsýni notkunarmöguleikana með dæmum notkunarmöguleikana með mynd dæmum úr eigin rekstri. Þú færð betri af því eigin rekstri. Þú gert, færð hvernig betri mynd því hvað tólin geta þau af gætu hvað tólinoggeta hvernig þau gætu nýst þér hvargert, þú getur byrjað. nýst þér og hvar þú getur byrjað. Fimmtudaginn 15. október Fimmtudaginn 15. október Kl. 16:00 Kl. 16:00 Engin forkunnátta nauðsynleg Engin forkunnátta nauðsynleg Þú þarft ekki greidda áskrift Þú þarft ekki greidda áskrift að gervigreindarþjónustu. að gervigreindarþjónustu.
Sindri Ragnarsson Sindri Ragnarsson Kennari og eigandi Glacier Trips Kennari og eigandi Glacier Trips
Nýheimar, efri hæð Nýheimar, efri hæð Um 3,5 klst. Um 3,5 klst. Taktu með fartölvu Taktu með fartölvu Við prófum tólin saman Við prófum í litlum hópi.tólin saman í litlum hópi.
Skráning: sindri@icelandvision.com Skráning: sindri@icelandvision.com icelandvision.com icelandvision.com
Athugaðu með endurgreiðslu hjá stéttarfélaginu þínu. Athugaðu með endurgreiðslu hjá stéttarfélaginu þínu.
19.900 kr. 19.900 kr.
www.eignin.is
SÝNINGAROPNUN
HEIMÞRÁ Verbúðarbarinn, laugardaginn 24. október kl. 15. Verið velkomin á opnun myndlistarsýningar Sigurborgar A. Helgadóttur. Heimþrá er sýning á landslagi sem býr ekki aðeins fyrir augum okkar, heldur líka innra með okkur.
verbudarbarinn
EYSTRAHORN
27
ÖRÆFAHLAUPIÐ Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Öræfahlaupið hefur farið fram í Skaftafelli undanfarin tvö ár og þar hlaupa þátttakendur um stórbrotið landslag, meðal annars á leiðinni að Kristínartindum. Óhætt er að segja að viðmælandi Eystrahorns, Þorsteinn Roy, einn af aðstandendum hlaupsins, þekki fjöllin og stígana í Öræfunum vel og hefur sjálfur hlaupið víða um svæðið. Við ræddum við Þorstein um hvernig hugmyndin að hlaupinu kviknaði, framkvæmdina, þátt heimafólks og framtíð Öræfahlaupsins. Hvernig kviknaði hugmyndin að Öræfahlaupinu? Þessi hugmynd hafði lengi blundað í kollinum á mér. Það var svo ekki fyrr en vinur minn, Hlynur Guðmunds, sem er mikill hlaupari og reyndur hlaupahaldari, hljóp upp að Kristínartindum þegar hann var staddur í Skaftafelli og kom til mín með hugmyndina að halda hlaup á þessum slóðum, að við ákváðum að láta hugmyndina verða að veruleika. Teymið sem heldur Öræfahlaupið samanstendur af mér, Hlyni og Ósk Gunnarsdóttur ásamt okkar frábæru fjölskyldum. Hvernig er fyrir þig að halda hlaupið á heimaslóðum? Það er ótrúlega gaman að halda hlaup á mínum heimaslóðum og fá að sýna fólki þessa náttúrufegurð sem Öræfin hafa upp á að bjóða. Það er svo mikil kyrrð og dramatík í landslaginu á sama tíma. Mér þykir einnig ótrúlega vænt um hvað heimafólk tekur vel í þennan viðburð og mörg fyrirtæki úr sveitinni heima og víðar hafa sýnt okkur ómetanlegan stuðning sem hjálpar mikið við framkvæmdina.
Hvernig varð hlaupaleiðin til? Við erum svo heppin að eiga í góðu samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð, sem viðheldur stígum þjóðgarðsins afar vel. Það var því lítið mál að teikna upp leið sem okkur þótti ákjósanleg. Fyrsta árið var hún örlítið öðruvísi en eftir ábendingu frá Ármanni í Víðihlíð, sem er mikill hlaupari, ákváðum við að breyta henni til hins betra. Hlaupið er alvöru utanvegahlaup með góðri blöndu af frábærum stígum, malarvegi, tæknilegu brölti og hröðu niðurhlaupi á mjóum stígum. Hvernig gekk hlaupið í ár? Það gekk ótrúlega vel, veðrið var frábært og við vorum alsæl með framkvæmdina. Við viljum færa öllum sem lögðu hönd á plóg við framkvæmdina kærar þakkir. Hvernig hafa viðbrögðin verið þessi fyrstu tvö ár?
Þorsteinn Roy nýtur sín vel á fjöllum
28 EYSTRAHORN
Viðbrögðin hafa verið afskaplega góð þessi fyrstu tvö ár. Fólk er að sjálfsögðu hrifið af náttúrunni og orkunni á svæðinu, enda ekki annað hægt. Svo sló barnapössunin rækilega í gegn síðasta sumar. Hversu stóran þátt á heimafólk í framkvæmdinni? Heimafólk á risastóran þátt í framkvæmdinni. Það er svo fallegt hvað fólk er boðið og búið að hjálpa til við allt. Sem dæmi settum við upp risastórt tjald sem við fengum lánað frá Ungmennafélagi Öræfa. Ég hugsa að á tímabili hafi verið um 20 manns að hjálpa okkur við að setja það upp. Eins hafa fyrirtækin á svæðinu sýnt okkur ómældan stuðning við hlaupið, bæði með því að útvega verðlaun og vinninga, hjálpa til við gistingu og gera upplifun allra sem koma til okkar enn betri. Við leggjum mikið upp úr því að viðburðurinn geti stutt
Góð þátttaka var í hlaupinu í ár
Í ár ákváðum við að gera aðeins meira. Við vildum að fjölskyldustemningin í Skaftafelli myndi smitast inn í viðburðinn.
við svæðið en taki ekki frá því. Hvað er mest krefjandi við að halda hlaup í Skaftafelli? Það er ekkert mjög krefjandi að halda hlaup í Skaftafelli. Öll aðstaða er frábær, stígarnir stórkostlegir, náttúran verður vart fallegri og svo eru Öræfingar alveg einstaklega hjálplegir. Svo má ekki gleyma því að teymið sem heldur hlaupið er reynslumikið, bæði í íþróttinni og viðburðahaldi. Þetta er blanda sem getur ekki klikkað. Hvernig sérðu Öræfahlaupið þróast? Við viljum gera betur á hverju ári og halda áfram að stækka viðburðinn, en í réttum skrefum. Fyrsta árið vildum við bara halda hlaupið og ekkert meira, en gera það mjög vel. Það sem skiptir mestu máli þegar haldið er hlaup er að brautarmerkingar og tímatökubúnaður séu í lagi. Allt hitt er svo til þess að bæta upplifun keppenda og aðstandenda.
Úr varð helgardagskrá fyrir alla fjölskylduna, allt frá krakkaleikum á föstudagskvöldinu yfir í uppistand með Sögu Garðars á laugardagskvöldinu eftir hlaupið sjálft. Einnig buðum við upp á barnapössun meðan á hlaupinu stóð, svo báðir foreldrar gætu tekið þátt og til að létta undir með þeim keppendum sem höfðu ekki pössun. Við ætlum klárlega að byggja ofan á þessa flottu helgi og gera sannkallaða fjölskylduhátíð í lok júní í Öræfunum næsta sumar. Við höfum einnig bætt við styttri vegalengd, um 12 km, til þess að höfða til fleiri hlaupara. Í framtíðinni langar okkur svo að bæta við enn lengri vegalengd sem er nú þegar komin á teikniborðið. Við sjáum það þó sem framtíðarverkefni og ætlum ekki að stækka of hratt í einu, bara í réttum skrefum. Viðburðurinn er og mun alltaf vera fyrir hlauparana og fjölskyldurnar sem mæta á svæðið og taka þátt. Þú heldur líka úti hlaðvarpinu Út að hlaupa, segðu okkur aðeins frá því Ég og góðvinur minn, Marteinn Urbancic, höldum úti hlaðvarpinu Út að hlaupa, þar sem við ræðum mestmegnis um hlaup, gerum upp keppnir, komum með góð ráð fyrir hlustendur og tökum viðtöl við allskonar fólk. Við höfum verið í
Hlaupið framhjá Svartafossi
loftinu í þrjú ár og reynum að taka upp einn þátt í viku. Þetta er ótrúlega skemmtileg aukavinna og gaman að finna fyrir miklum áhuga og hlustun. Við viljum að sjálfsögðu fá sem flesta Hornfirðinga á svæðið. Fyrstu tvö árin höfum við séð mörg andlit að austan og vonandi mun þeim fjölga enn meira á komandi árum. Því miður þurfa Hornfirðingar að ferðast töluvert til að taka þátt í flestum keppnishlaupum sumarsins og því um að gera að nýta tækifærið og næla á sig keppnisnúmerinu þegar hlaupaviðburður er haldinn innan sýslunnar. Ég hvet einnig fleiri til að skoða það að halda utanvegahlaup í þessum frábæru fjöllum sem við eigum í AusturSkaftafellssýslu. Möguleikarnir eru endalausir!
EYSTRAHORN 29
UNGT FÓLK OG LÝÐHEILSA Á REYKJUM Aðsend grein: Vaka Sif Tjörvadóttir, forstöðumaður Þrykkjunnar
Helgina 18.–20. september fóru fulltrúar úr Ungmennaráði úr Sveitarfélaginu Hornafirði á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsa sem haldin var á Reykjum í Hrútafirði. Í hópnum voru Vaka Sif, starfsmaður Þrykkjunnar, Freyja Dís úr FAS og þeir Adam Bjarni og Sigurður Arnar, sem báðir eru nemendur í 10. bekk.
Allir krakkarnir sem tóku þátt í ráðstefnunni
Lagt var af stað frá Höfn klukkan 8:30 á föstudagsmorgni og ekið til Egilsstaða. Þangað var komið upp úr hádegi. Á Egilsstöðum hitti hópurinn Eygló Rut, forstöðumann frístundamála hjá Fjarðabyggð, og annað ungmenni sem einnig var á leið á ráðstefnuna. Þaðan hélt hópurinn áfram saman til Reykja. Komið var á Reyki um klukkan 18:30 og farið beint í kvöldmat. Eftir það tók við dagskrá helgarinnar og var ýmislegt gert strax fyrsta kvöldið. Dagskráin yfir helgina var mjög fjölbreytt. Þar var bæði fræðsla, hópastarf, leikir og ýmislegt annað skemmtilegt. Á laugardeginum voru meðal annars fyrirlestrar og vinnusmiðjur þar sem rætt var um samfélagsmiðla, símanotkun, athygli og ýmislegt sem tengist daglegu lífi ungs fólks.
Sigurður og Adam ásamt öðrum þátttakanda
Það var langt frá því að öll helgin færi í að sitja og hlusta. Farið var í íþróttakeppni og ýmsa leiki, sem var skemmtilegt og skapaði góða stemningu. Einnig voru grillaðir sykurpúðar og nóg var af tíma til að spjalla, slaka á og kynnast hinum þátttakendunum betur. Eitt af markmiðum helgarinnar var að þátttakendur kynntust nýju fólki og fengu að prófa eitthvað nýtt. Á síðasta deginum var svokallað kaffihúsaspjall. Þar fengu þátttakendur að hitta alls konar fólk og setjast niður með því í stutt spjall. Gestirnir komu úr mismunandi áttum, meðal annars úr íþróttum, félagsstarfi og stjórnmálum. Eftir um 15 mínútur var skipt um borð og þannig gafst tækifæri til að ræða við fleiri en einn. Þetta var góð leið til að fá að heyra mismunandi sjónarmið og um leið gefa ungu fólki tækifæri til að segja frá sínum eigin hugmyndum og skoðunum. Það var lögð áhersla á að þessar umræður væru óformlegar og að gestirnir fengu líka að hlusta á raddir ungmennanna. Ráðstefnunni lauk á sunnudeginum og var lagt af stað frá
30 EYSTRAHORN
Freyja Dís og Vaka Sif skrá sig á ráðstefnuna
Reykjum um klukkan 13:30. Eftir langa heimferð var hópurinn kominn aftur til Hafnar um klukkan 23:30 um kvöldið. Ferðin var mjög vel heppnuð og helgin skemmtileg og fjölbreytt. Það var nóg að gera, bæði fræðandi og skemmtilegt, og um leið gott tækifæri til að hitta ungt fólk frá öðrum stöðum á landinu og kynnast nýju fólki.
NÝ VERSLUN MEÐ GÆLUDÝRAVÖRUR Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Nú í september opnuðu hjónin Bjartur Hafsteinsson og Árnína Guðjónsdóttir gæludýraverslunina Dímu í gamla slysavarnahúsinu á Álaugarvegi. Eystrahorn hafði samband og forvitnaðist um upphafið og hvernig þau hjónin sjá fyrir sér reksturinn í framtíðinni. Hvenær opnuðuð þið? Við tókum við af Janine 1. ágúst síðastliðinn og byrjuðum í bílskúrnum okkar á Sandbakka. Við sáum strax að það var ekki að virka þar sem bílskúrinn varð fljótt fullur og við vorum byrjuð að fylla stofuna af gæludýra- og bændavörum. Hvað kom til að þið fóruð í þetta? Það var bara tilviljun. Einhvern tíma í vor vorum við að tala við Janine um hvað þetta yrði bagalegt fyrir staðinn, að missa bæði dýralækni og verslunina af svæðinu. Svo kom til tals hvort við ættum ekki bara að taka við versluninni og við ákváðum að slá til. Nafnið var að þvælast töluvert fyrir okkur, við fórum marga hringi og eyddum mörgum klukkutímum í að finna nafn. Við enduðum á að láta búðina bera sama nafn og fyrirtækið okkar sem hefur haldið utan um gistihúsareksturinn, Díma. Núna í ár er Díma ehf. 20 ára, þannig að þetta er kærkomin viðbót á merkum tímamótum. Eru einhverjar sérstakar áherslur? Við viljum leggja okkur fram um að veita sem besta þjónustu og ætlum að reyna að vera á samkeppnishæfu verði.
Ef fólk er að leita að einhverri ákveðinni vöru (sem tengist gæludýrum eða búfénaði) og hún er ekki til, þá viljum við endilega að fólk tali við okkur og við athugum hvort við getum ekki fengið hana. Hvernig sjáið þið þetta fyrir ykkur þróast? Okkur langar í framtíðinni að fara alla leið og vera með meira úrval af öllu og vonandi seinna meir gæludýr. Við höldum í vonina um að við munum stækka smátt og smátt með tímanum. Hefur þetta þróast hratt eða breyst mikið frá því að þið ákváðuð þetta fyrst? Já, í rauninni. Við vorum ekki viss hvernig og hvar við ættum að byrja. Hvort við ættum að hafa þetta smátt í sniðum og hafa þetta í bílskúrnum eða hafa þetta stærra og meira. Að lokum tókum við þá ákvörðun að byrja á því að fara milliveginn og leigja þetta flotta húsnæði af Verkfærni. Það hentar ótrúlega vel í þessa starfsemi og við erum ánægð með útkomuna. Við finnum fyrir mikilli þörf fyrir að hafa þessa þjónustu á svæðinu.
Bjartur bak við búðarborðið á meðan framkvæmdum stóð
Árnína og Bjartur eigendur Dímu
Hvenær eru opnunartímar og hvar? Við erum á Álaugarvegi 9 (þar sem gamla Slysavarnarhúsið var) Við vitum ekki alveg þörfina, þannig að við ætlum að byrja á því að hafa opið alla virka daga frá 12:00-16:00. Ef þörfin verður meiri, þá breytum við bara opnunartímanum. Eins og maðurinn sagði: "Við eigum þetta og megum þetta!" Við erum og verðum mikið hér á öllum tímum og þá kveikjum við á "Open" ljósinu sem er í glugganum fyrir ofan hurðina. Einnig má hafa samband ef einhver þarf að komast í búðina utan opnunartíma.
Mikið úrval er í nýju búðinni
EYSTRAHORN
31
BALKANSKAGINN, ÓKÖNNUÐ PERLA FYRIR ÍSLENDINGA Aðsend grein: Nejra Mesetovic, stofnandi og leiðsögumaður Balkanferða
Ég flutti frá Bosníu til Hafnar með fjölskyldu minni þegar ég var fimm ára gömul. Síðustu 25 ár hef ég farið aftur heim á hverju ári, stundum oft á ári, og ferðast víða um Balkanskagann. Skaginn er ólíkur Íslandi á margan hátt en náttúrufegurð, rík menning og svæðisbundið hráefni í matargerð heilla ferðalanga við hvert fótmál. Fyrir mér er Bosnía því ekki áfangastaður heldur hluti af minni menningu og sjálfsmynd, mitt annað heimili. Í gegnum árin hef ég ferðast mikið með íslenskum og alþjóðlegum vinum til Bosníu og nágrannalandanna og haft mikla ánægju af því að sýna þeim Balkanskagann, menninguna og staðina sem ég þekki svo vel sjálf. Því langar mig nú að bjóða Hornfirðingum og öðrum áhugasömum í ferðalag um þetta einstaka svæði. Eftir FAS fór ég til Reykjavíkur og lærði þar ferðamálafræði í HÍ. Ég hef einnig starfað á fjölbreyttum sviðum ferðaþjónustunnar, meðal annars við herbergisþrif, þjónustu, rekstur gistiheimilis, concierge-þjónustu, ferðaskipulag, sölu ferða og markaðsmál. Ég þekki því ferðaþjónustugreinina vel og frá fjölbreyttum sjónarhornum. Mér er því mikið í mun að skipuleggja ferðir mínar vel, þar sem gestir mínir fá að njóta alls hins besta á áhyggjulausu ferðalagi en uppgötva leyndar perlur og gestrisni heimamanna. Ég vil bjóða upp á ferðir þar sem fólk fær að kynnast Bosníu á persónulegan hátt. Næsta hópferð Balkanferða er á dagskrá 26. maí til 9. júní 2027. Um er að ræða 15 daga ferð um Bosníu og Hersegóvínu og Króatíu þar sem menning, náttúra og afslöppun fara saman. Beint flug er í boði og ferðast á rútu um löndin. Á ferðalaginu er dvalið í eina til fjórar nætur á hverjum stað þar sem ýmist er boðið upp á skoðunarferðir, upplifanir eða frjálsan tíma, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Ferðinni lýkur svo á rólegum
32 EYSTRAHORN
Balkanskaginn hefur mikið upp á að bjóða fyrir ferðaþyrsta Hornfirðinga
dögum í Split við Adríahaf. Hámarksfjöldi í ferðina eru 20 manns. Til að tryggja gæði ferðarinnar og auðveld samskipti mun ég sjálf fylgja hópnum og leggja áherslu á að skapa góða og afslappaða stemningu. Auk auglýstrar ferðar býð ég einnig upp á sérsniðnar einkaferðir, sérhannaðar út frá þínum óskum. Leitaðu til mín með hugmynd þína og við hönnum fullkomna ævintýraferð fyrir þig og þinn hóp. Boðið er uppá ferðir með eða án leiðsagnar minnar. Ég hlakka til að taka á móti þér og sýna þér Balkanskaga heimamanna. Á heimasíðu Balkanferða, www. balkantravel.is, má finna nánari upplýsingar um ferðir, dagskrá og verð. Einnig er hægt að fylgjast með Balkanferðum á Facebook og Instagram eða hafa samband við mig beint.
Fjölbreytt mannlíf er á Balkanskaganum
SÖNGLEIKJASPRENGJA LEIKFÉLAGS HORNAFJARÐAR
Aðsend grein: Leikfélag Hornafjarðar
Leikfélag Hornafjarðar vinnur nú ötullega að undirbúningi Söngleikjasprengju sem fyrirhugað er að setja upp í nóvember. Þar mun hópurinn flytja vel valin lög úr söngleikjum og rýna í hugarheima þeirra við skemmtilegar aðstæður, þar sem markmiðið er fyrst og fremst að njóta, hafa gaman og skemmta sér. Ferlið hefst á kynningarfundi sem verður haldinn í Sindrabæ 12. október kl. 20:00. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eru velkomnir á fundinn. Verkefnið er ætlað fólki 16 ára og eldra og hvetjum við öll áhugasöm til að mæta. Einnig er hægt að fylgjast með Leikfélagi Hornafjarðar á Instagram og Facebook.
Svipmyndir úr starfi leikfélagsins
EYSTRAHORN
33
HVATNINGARVERÐLAUN FYRIR VÍSINDAMIÐLUN
Aðsend grein: Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu
Vaka Sif Tjörvadóttir, 18 ára nemandi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, hlaut laugardaginn 26. september sérstök hvatningarverðlaun á Vísindavöku Rannís í Laugardalshöll fyrir vísindasmiðjuna Vísindi í verki.
Vaka Sif tekur við hvatningarverðlaununum
Vaka Sif setti vísindasmiðjuna á laggirnar síðastliðið sumar. Hugmyndin var að bjóða börnum í Hornafirði upp á skemmtilegt sumarnámskeið þar sem þau fengju að kynnast vísindum með verklegum tilraunum og prófa sjálf að rannsaka, skapa og uppgötva.
Frá vísindasmiðjunni í sumar
FAS óskar Vöku Sif innilega til hamingju með verðlaunin og er sérstaklega ánægjulegt að hafa getað lagt verkefninu lið með aðstöðu og búnaði. Verkefnið sýnir vel hversu langt góð hugmynd og frumkvæði geta náð.
Vaka hafði sjálf frumkvæði að smiðjunni og sá um skipulagningu og undirbúning námskeiðsins. Hún undirbjó tilraunir og verkefni, prófaði þau fyrirfram og aflaði búnaðar og þeirra aðfanga sem þurfti til framkvæmdarinnar. FAS studdi verkefnið með því að lána Vöku húsnæði fyrir námskeiðin og ýmsan búnað úr náttúrufræðikennslu skólans. Sveitarfélagið Hornafjörður tók námskeiðið inn í sumardagskrá sína og sá meðal annars um skráningu þátttakenda og kynningu. Áhuginn reyndist mikill og námskeiðin fullbókuðust. Boðið var upp á námskeið fyrir tvo aldurshópa og fengu börnin sjálf að taka virkan þátt í fjölbreyttum vísindatilraunum. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og börnin voru ánægð með námskeiðin. Einn þátttakandi lét meðal annars þau orð falla að nú vildi hún verða vísindakona.
34 EYSTRAHORN
Starfsmenn Rannís tóku viðtal við Vöku Sif af tilefninu
HLAUPAHÓPURINN 5 ÁRA ÆFINGAR Í VETUR Aðsend grein: Helga Árnadóttir
Tíminn hleypur áfram og ótrúlegt en satt þá eru liðin 5 ár frá því að Hlaupahópur Hornafjarðar kom saman haustið 2021.
Hlauparar frá Hlaupahóp Hornafjarðar sem tóku þátt í The Puffin Run í Vestmannaeyjum
Hornfirskir hlauparar hafa brallað ýmislegt á þessum fimm árum: Hlaupið í öllum veðrakerfum Suðausturlands, tekið þátt í hlaupakeppnum innanlands sem utan og reglulega hafa verið farnar hlaupaferðir um fallegan bakgarð Hornafjarðar. Undirrituð hefur haldið utan um starf hlaupahópsins frá upphafi, eftir því sem tími og aðstæður hafa leyft. Í ár eru 20 ár liðin frá því ég mætti sjálf á mína fyrstu æfingu hjá Laugaskokk í Reykjavík. Ég segi oft að það sé mitt mesta lán að hafa farið í hlaupahóp. Útivist var vissulega hluti af lífinu frá unglingsárum en markviss hlaupaþjálfun færði mína þjálfun og heilsu á næsta stig. Eftir að ég fór að halda utan um hlaupahóp á Höfn hef ég tekið 2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ, sótt hlaupanámskeið hjá FRÍ og lokið grunnnámi í fjallamennsku.
Síðasta vetur voru ekki fastar æfingar hópsins en eftir góð viðbrögð við könnun og mætingu á fyrstu æfingu er alveg greinilegt að áhugi og þörf er til staðar. Ég stefni því ótrauð á það að halda úti æfingum einu sinni í viku, a.m.k. fram að áramótum og meta svo stöðuna aftur. Ef fleiri vilja bætast í hópinn þá endilega mæta og/eða setja sig í samband. Eitt helsta markmið með hópnum er að bæta lífsgæði einstaklinga með því að geta hlaupið sér til heilsubótar og aukinnar gleði, því já, það er svo sannarlega gaman að hlaupa og hvað þá að deila gleðinni með öðrum! Æfingar í vetur verða á þriðjudögum, kl 16.30 (nema annað verði tekið fram). Upphafsstaður æfinga getur verið breytilegur og munu skráðir iðkendur fá upplýsingar í gegnum facebook hóp. Á hverri æfingu verða sett upp 2-3
Helga á góðri stundu
erfiðleikastig af æfingum þannig að fjölbreytt flóra hlaupara getur tekið þátt. Byrjendur velkomnir. Sjáumst á hlaupum! EYSTRAHORN
35