Skip to main content

Eystrahorn 7.tbl 2026

Page 1

EYSTRAHORN 7. tbl. 44. árgangur 3. september 2026


FRÁ RITSTJÓRA NÚNA

Ég er að lesa, eða reyndar hlusta, á Kraftinn í núinu eftir Eckhart Tolle. Ekki í fyrsta skipti, örugglega í þriðja. Bókin er ekki alltaf svo auðskilin og sumar pælingarnar finnst manni ansi djúpar, allavega við fyrstu, aðra og jafnvel þriðju hlustun. En einn helsti boðskapur bókarinnar er einfaldur: Það eina sem við í raun og veru eigum er NÚNA. Það er svo auðvelt að festast í fortíðinni og framtíðinni. Hafa áhyggjur, bíða eftir einhverju eða sjá eftir einhverju. Allt sem hefur gerst gerðist einhvern tímann núna og allt sem á eftir að gerast mun gerast núna þegar að því kemur. En á meðan við veltum okkur upp úr því sem var og því sem gæti orðið, líður núið fram hjá okkur.

EN NÚIÐ ER ALLS EKKI SVO SLÆMT Haustið er farið að láta á sér kræla, norðurljósin byrjuð að sýna sig og náttúran að verða litríkari. Að við tölum nú ekki um sveppina og berin sem eru upp á sitt besta! Núna er rútínan að fara á fullt og samfélagið fer aftur af stað eftir sumarið. Skólarnir, íþróttirnar, kórarnir, félagsstarfið og alls konar fleira gott sem við getum notið. Við þurfum ekki alltaf að bíða eftir betri tíma.

NÆSTA BLAÐ

Núna er tíminn. Njótum hans eins og við getum. Verum saman, mætum og höfum gaman. Núna.

GUÐRÚN ÁSDÍS Ritstjóri

Næsta Eystrahorn kemur út

FIMMTUDAGINN 1. OKTÓBER SKILADAGUR Á EFNI OG AUGLÝSINGUM FÖSTUDAGINN 25. SEPTEMBER

Útgefandi: HLS ehf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir Netfang: eystrahorn@eystrahorn.is Sími: 867 6604 Heimasíða: www.eystrahorn.is

Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes Umbrot: Tjörvi Óskarsson Forsíðumynd: Einar Rúnar Sigurðsson, tekið frá Ingólfshöfða Prentun: Litlaprent ISSN 1670-4126


HRÓSIÐ

Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is.

SUMARNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN Mig langar að hrósa Ágústu Margréti fyrir virkilega metnaðarfullt og flott skipulag á sumarnámskeiðum. Kofabyggðin (Villingar) og Fablabið eru þau námskeið sem ég fékk kynni af og voru frábær og virkilega glatt barn sem kom heim alla dagana - sem segir kannski meira en mörg orð! Vil ásamt því að hrósa Ágústu skella hrósi á alla þá sem stóðu fyrir fjölbreyttum námskeiðum í sumar! Lína Dóra

Ágústa hélt utan um barnastarf sveitarfélagsins í sumar. Aida og Vaka Sif leiðbeindu krökkunum í kofabyggðinni.

ÞJÓNUSTA MARTÖLVUNNAR Stefán Brandur og Sigga í Martölvunni fá hrós frá mér fyrir að standa vaktina í rafheimum með ráðleggingum, lausn vandamála og vörusölu. Það er mjög verðmætt í litlu samfélagi eins og okkar að geta í heimabyggð gengið að góðri þjónustu í sífellt flóknari rafheimi. Almenna þróunin er sú að nærþjónustan er að dragast saman og smáfyrirtækjum er að fækka. Þessi þróun dregur úr

gæðum samfélaga. Við getum spornað við henni með því að nýta okkur þjónustu í heimabyggð og með þeim hætti gert okkar samfélag betra. Ég vil líka hrósa Stefáni sérstaklega fyrir að vera skoðanaduglegur maður hvort sem ég hitti hann í búðinni eða í rafheimum. Upp með nálægð, samtal og samskipti í nærsamfélaginu. Eyjólfur Guðmundsson

Sigga og Stefán, eigendur Martölvunnar

Daglegar ferðir milli Hafnar og Reykjavíkur Sími: 470 8220 Óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn EYSTRAHORN

3


KIWANISKLÚBBURINN ÓS STARFSÁRIÐ 2025–2026 Aðsend grein: Snævarr Guðmundsson

Starfsár Kiwanisklúbbsins Óss á Höfn í Hornafirði 2025–2026 einkenndist af öflugu félagsstarfi og fjölbreyttum verkefnum. Klúbburinn starfar undir kjörorði Kiwanis, „Hjálpum börnum heimsins“, og leggur ríka áherslu á að efla samfélagið með stuðningi við börn, fjölskyldur og önnur mikilvæg samfélagsverkefni. Um leið er lögð rækt við gott félagslíf og öflugt samstarf við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í heimabyggð. Helstu fjáröflunarverkefni klúbbsins eru jólatréssalan í Jólaþorpi Kiwanis, hið vinsæla páskabingó og góðgerðarveisla. Allur ágóði rennur í Styrktarsjóð Óss, sem veitir árlega stuðning til fjölmargra verðugra verkefna í Hornafirði. Hefur Ós meðal annars veitt stuðning til bágstaddra fjölskyldna í samstarfi við Samfélagssjóð Hornafjarðar og Nettó, en auk þess styrkt leikskóla, grunnskóla, framhaldsskólann og heilbrigðisþjónustu. Klúbburinn hélt einnig áfram að styrkja kaup á sérhæfðum íþróttagleraugum fyrir börn og lagði sitt af mörkum til að gleðja fjölskyldur um jólin með gjöfum til barna. Félagar í Ósi tóku virkan þátt í starfi Kiwanis á landsvísu og studdu jafnframt alþjóðleg verkefni hreyfingarinnar sem miða að því að bæta hag barna um allan heim. Á síðasta starfsári veitti Ós 500.000 króna framlag til Kiwanis Children Fund (KCF). Slíkt framlag telst styrktarinnlegg í KCF. Kiwanis á Íslandi hefur um árabil staðið fyrir öflugum samfélagsverkefnum, svo sem hjálmaverkefninu fyrir sex ára börn og K-dags söfnunum til styrktar einstökum börnum og öðrum mikilvægum málefnum. Á starfsárinu var einnig áfram unnið markvisst að því að efla félagsstarfið og fjölga félögum. Sérstök áhersla hefur verið lögð á undirbúning að stofnun nýs kvennaklúbbs á Hornafirði. Undanfarin ár hefur starfað svokallaður hliðarklúbbur kvenna innan Óss og hefur þeim sem taka þátt í því starfi fjölgað jafnt og þétt. Markmiðið er að stofna sjálfstæðan Kiwanisklúbb kvenna

4

EYSTRAHORN

Stefanía, Sigurður, Olga, Ásta, Ingvar og Stefán. Myndin var tekin í tilefni inngöngu tveggja kvenna í Kiwanis klúbbinn

þegar nægjanlegur fjöldi félaga hefur bæst í hópinn. Verður kvennaklúbburinn vígður á umdæmisþinginu sem verður haldið á Höfn í Hornafirði í september næskomandi. Þetta verkefni er mikilvægt skref í endurnýjun og eflingu Kiwanisstarfsins á svæðinu og mun skapa fleiri tækifæri fyrir konur til virkrar þátttöku í þjónustustarfi hreyfingarinnar. Dagana 10. – 13. september verður umdæmisþing Kiwanis haldið hér á Höfn en núverandi umdæmisstjóri er félagi í Ós, Sigurður Einar Sigurðsson. Við eigum von á því að þá daga mæti 200 300 Kiwanisfélagar, víðsvegar af landinu og frá Færeryjum til Hafnar. Á næsta starfsári verður jafnframt haldið upp á merk tímamót þegar Kiwanisklúbburinn Ós fagnar 40 ára afmæli sínu árið 2027. Stefnt er að veglegri afmælishátíð sem verður um leið tækifæri til að minnast þeirra fjölmörgu verkefna sem félagar hafa unnið að í þágu samfélagsins frá stofnun klúbbsins árið 1987. Stjórn Kiwanisklúbbsins Óss vill að lokum færa öllum félagsmönnum, velunnurum, fyrirtækjum og samstarfsaðilum innilegar þakkir fyrir

stuðning og þátttöku á starfsárinu. Án þess öfluga baklands væri ekki unnt að sinna því mikilvæga starfi sem Kiwanis stendur fyrir – að bæta samfélagið og leggja sitt af mörkum til betri framtíðar fyrir börnin. Ef þú lesandi góður vilt leggja hönd á plóg í jafn öflugu góðgerðastarfi og Kiwanisklúbburinn Ós sinnir er hægt að skrá sig í klúbbinn í gegnum póstfangið os@kiwanis.is.

Félagar í Kiwanis afhenda krökkum í 1. bekk öryggishjálma


GULUR SEPTEMBER

Í tilefni af Gulum september býður Ferðafélag AusturSkaftfellinga upp á tvær fríar göngur í september.

Innritun í söngnámskeið Tónskólans

Þorgeirsstaðaklif í Lóni

Innritunin fer í gegnum www.hornafjordur.is/tonskoli

Miðvikudaginn 9. september Ragna Péturs leiðir léttan 6 km hring um Þorgeirsstaðaklif að Ólafshelli. Erfiðleikastig er 1 skór. Lagt verður af stað frá tjaldsvæðinu á Höfn kl. 16:30.

Hnappavellir í Öræfum

Laugardaginn 12. september Sigrún og Lóa Þórðar leiða um 6 km göngu á Hnappavöllum. Leiðin er að mestu á sléttlendi og erfiðleikastig er 1 skór. Lagt verður af stað frá tjaldsvæðinu á Höfn kl. 9:00 og ekið að réttinni neðan við bæina á Hnappavöllum. Þau sem vilja geta mætt beint þangað kl. 10:00.

Gott að hafa í huga

Öllum er velkomið að taka þátt í gönguferðum félagsins. Frítt er í báðar göngurnar. Klæðist eftir veðri og munið eftir nesti. Hundar eru ekki leyfðir í þessum ferðum þar sem september er sá tími árs sem smölun stendur sem hæst.

Söngnámskeiðin eru opin nemendum í 3.-7. bekk grunnskólans. Athugið, það þurfa allir að sækja um sem vilja fara á þessi námskeið. Takmarkaður fjöldi kemst að á haustönn. Umsóknarfrestur er út föstudaginn 4. september. Vegna mikillar aðsóknar í söngnám þá getum við ekki boðið nemendum í 7. bekk að sækja einkatíma í söng á þessu skólaári og verða þau því í hóptímum. Skólastjóri

Stjórn Ferðafélags Austur-Skaftfellinga

EYSTRAHORN

5


SMÁDÝRALÍF SKARÐSFJARÐAR Aðsend grein: Hólmfríður Jakobsdóttir, líffræðingur Náttúrustofu Suðausturlands

Horft yfir leirur inn með Flóa í Skarðsfirði

Allt um kringum Höfn er að finna leirur sem standa upp úr sjó á fjöru. Þó þær virðast líflausar við fyrstu sýn er fjölda smádýra að finna undir yfirborðinu. Þessi smádýr gera leirur að mikilvægu fæðusvæði fugla og fiska. Leirur eru þannig grunnstoð fæðukeðjunnar og mikilvægar fyrir lífríkið í heild sinni, bæði til lands og sjávar. Síðastliðnar vikur hafa sérfræðingar Náttúrustofu Suðausturlands unnið að rannsókn á smádýralífi í leirunum í Skarðsfirði. Þá eru lagðir út rannsóknarreitir, þekja gróðurs og pípuorma skráð og sandmaðkshraukar taldir. Einnig eru tekin sýni úr setinu í hverjum reit og smádýr sigtuð úr þeim.

6

EYSTRAHORN

Rannsóknarreitur yst í Flóa. Þrír sandmaðkshraukar innan reits

Þau eru svo greind í víðsjá, en það er einskonar smásjá. Smádýrin eru greind til tegunda ættar, ættkvíslar eða fylkingar. Tilgangurinn er að fá yfirlit á lífríki svæðanna sem er síðan mikilvægur þáttur þess að meta líffræðilega fjölbreytni og stöðugleika vistkerfisins í kringum Höfn. Síðast var smádýralíf í Skarðsfirði metið árið 1979 með sambærilegum aðferðum. Með því að bera gögnin sem

nú er aflað við gögnin frá 1979 má meta hvort og hvaða breytingar hafi orðið á lífríki Skarðsfjarðar og jafnvel rekja hvort breytingin sé afleiðing mannlegra inngripa eða náttúrulegs landriss. Náttúrustofan leitar eftir aðstoð heimamanna með verkefnið. Við óskum eftir ljósmyndum af Skarðsfirði á fjöru, sem voru teknar á árunum 19701990. Slíkar myndir hjálpa til að öðlast


Hólmfríður sigtar smádýr úr seti sýnisins

betri sýn í ástand svæðisins á þessum tíma og framvindu leira í Skarðsfirði síðan þá. Myndir má senda á netfangið hoffy@nattsa.is eða koma með þær á skrifstofur starfsmanna á vesturgangi neðri hæðar í Nýheimum.

Courtney grefur upp smádýrasýni

JÚLLATÚN 8-10 780 HÖFN OPIÐ HÚS Laugardaginn 12.sept kl. 12:00-13:00

Til sölu glæsileg parhús með innbyggðum bílskúr. Eignirnar eru skráðar 130,8fm, þar af bílskúr 32,5fm og afhendast fullbúnar með gólfefnum. verð kr. 74.900.000.-

Velkomin í opið hús!

Helgi Jónsson lögilltur fasteignasali s: 780-2700 helgi@fstorg.is

EYSTRAHORN

7


BÓKASKÁPAR ÞÓRBERGS ÞÓRÐARSONAR Aðsend grein: Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs

Í tilefni af 20 ára afmæli Þórbergsseturs á þessu ári ákvað ég að skrá þessa litlu sögu til heiðurs þeim sem af góðum hug og gjafmildi studdu við uppbyggingu Þórbergsseturs og eiga heiður skilið fyrir að bjarga frá glötun minningum frá liðnum tíma. Það getur vel verið að fleiri sögur birtist hér á afmælisári. Fyrir mörgum árum hringdi síminn í dagsins önn á skrifstofu Þorbjargar Arnórsdóttur forstöðumanns Þórbergsseturs. Í símanum var Hólmfríður Sigurðardóttir og kynnti sig sem eiginkonu Gríms Helgasonar cand mag sem var fyrrverandi forstöðumaður handritadeildar Landsbókasafns og þá var látinn fyrir nokkrum árum síðan. Síðar vissi undirrituð að hún var m.a. móðir Vigdísar Grímsdóttur skáldkonu og rithöfundar og Gríms Grímssonar þáverandi yfirlögregluþjóns og núverandi alþingismanns. Hún sagðist eiga það erindi við Þórbergssetur að Margrét Jónsdóttir eiginkona Þórbergs hafi gefið manninum hennar honum Grími Helgasyni á sínum tíma bókaskápa Þórbergs, það var þegar Margrét flutti frá Hringbraut 45 að Þórbergi látnum. Sagði hún að Margrét hafi verið afskaplega hrifin af manninum hennar Grími Helgasyni, - og viljað að hann nyti góðs af gjöf þessari. Hólmfríður bætti síðan við kankvís í röddinni, „Ég skildi það mjög vel að hún væri hrifin af honum, því hann var svo góður maður“. Nú kvaðst Hólmfríður vera að flytja í minna húsnæði og þurfti hún að losa sig við bókaskápana, en vildi vita af þeim á góðum stað. og hún bætir því við í biðjandi tóni, „Kærið þið ykkur nokkuð um þá?“ Það geta víst allir getið sér þess til hvert svarið var fyrir hönd Þórbergsseturs. Auðvitað voru bókaskápar Þórbergs Þórðarsonar afar vel þegnir inn í þjóðsögustofuna hans Þórbergs sem er endastöðin á sýningu Jóns Þórissonar um æviferil Þórbergs. Þeir voru síðan fluttir hér austur á Hala og skipt út í staðinn fyrir einfaldar ikea hillur sem áður höfðu verið sem sýnishorn af bókahillum Þórbergs.

8

EYSTRAHORN

Í þá var svo raðað bókum úr bókasafni Þórbergs sem höfðu borist sem gjöf frá Þjóðarbókhlöðu, - en Þórbergur og Margrét arfleiddu Háskólabókasafnið að bókum Þórbergs og voru þær margar hverjar geymdar í bókakössum í Þjóðarbókhlöðu, - en voru sendar austur á Hala stuttu

eftir að Þórbergssetur var opnað. Eru þar miklar gersemar m.a. áritaðar bækur frá vinum Þórbergs og gjarnan merkum Íslendingum svo sem Halldóri Laxnes og Ragnari í Smára svo eitthvað sé nefnt. Helga Jóna Ásbjarnardóttir bróðurdóttir Margrétar, kölluð Lilla Hegga


muni og fagnar því að rifja upp kynni sín af þeim hjónum. Bækurnar hans Þórbergs eru lifandi veruleiki með fasta búsetu í hugum margra Íslendinga. Sögupersónur hans eru raunverulegt fólk, þannig að fjöldi gesta Þórbergsseturs tengist þeim tilfinningaböndum og þekkir sagnaheim verka hans. Tvær góðar vinkonur á góðri stund. Helga Jóna og Þorbjörg

sjálf sögupersónan í Sálminum um blómið, gaf til Þórbergsseturs styttusafn sem hún hafði erft eftir Þórberg látinn. Lilla Hegga gaf Sobbeggi afa alltaf litla postulínsstyttu á afmælinu hans og „afmælinu hans Jesú". Safnið telur um 40 styttur og það fylgdi með gjöfinni frá Helgu Jónu að stytturnar ættu að fara efst í bókaskáp í þjóðsögustofunni/umskiptingastofunni og þar undir gler. Og viti menn með gjöfinni á bókaskápum Þórbergs leystist loksins þetta mál. Nú var hægt að koma styttunum á réttan stað og setja gler fyrir og þar eru þær alveg eins og þær voru á Hringbrautinni hjá honum Sobbeggi afa. Helga Jóna kom í sína síðustu heimsókn hér á Hala árið 2018 og þá enn færandi hendi með kínverska tebollasettið, sem Sobbeggi afi gaf Mömmugöggu þegar hann kom heim úr Kínaförinni 1952. Ekki óraði mig fyrir því þá að við ættum ekki eftir að njóta þeirrar gæfu að fá Helgu Jónu oftar í heimsókn en það fór nú svo að hún lést 18. febrúar árið 2020. Sem betur fer auðnaðist Helgu Jónu að sjá stytturnar á réttum stað í hillunni efst í

bókaskápnum hans Sobbegi afa. „Þær eru komnar heim“ sagði hún. „Meira að segja heim í Suðursveitina“. „Mikið eru þau nú glöð Sobbeggi afi og Mammagagga þarna uppi á astralplaninu.“ - og mikið glöddumst við saman við Helga Jóna þegar þessum merka áfanga var náð. Það er nefnilega þannig, sagði Helga Jóna af þessu tilefni „Litlu atvikin verða alltaf að svo skemmtilegum sögum hér á Hala, og hversdagslífið að stórum ævintýrum“. Saga þessi er gott dæmi um það hvernig Þórbergssetur er alltaf að verða til með fólkinu í landinu sem þekkti Þórberg og Margréti og kemur í heimsókn í Þórbergssetur, segir sögur, gefur

Það eru mikil forréttindi að hafa fengið að starfa í sagnaveröld Þórbergs Þórðarsonar og taka á móti óvæntum atburðum á hverjum degi. Við á Hala erum því í ævarandi þakkarskuld við alla þá sem hér hafa lagt hönd á plóginn til að gera heiður Þórbergsseturs sem mestan og stuðla að velgengni þess undanfarin tuttugu ár.

Helga Jóna við bókaskápinn hans Þórbergs

alltaf á sínum stað... www.asa.is

AFL Starfsgreinafélag | asa@asa.is | Sími/tel. 470 0300 EYSTRAHORN

9


KIWANISUMDÆMIÐ ÍSLANDFÆREYJAR MEÐ ÞING Á HÖFN Aðsend grein: Sigurður Einar Sigurðsson, umdæmisstjóri Kiwanisumdæmið Ísland-Færeyjar

Dagana 11. – 13. september verður mikið um að vera á Höfn þegar þing Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar fer fram. Svipmyndir úr starfi Kiwanis

Þingið sækja Kiwanisfélagar víðs vegar að af Íslandi og Færeyjum og er það mikilvægur vettvangur fyrir starfsemi hreyfingarinnar. Kiwanis eru alþjóðleg sjálfboðasamtök sem vinna að því að bæta heiminn með þjónustu í þágu barna. Kjörorð hreyfingarinnar er: „Hjálpum börnum heimsins.“

Svipmyndir úr starfi Kiwanis

10 EYSTRAHORN

Kiwanisfélagar leggja sitt af mörkum til samfélagsins með fjölbreyttum verkefnum sem styðja við börn, fjölskyldur og nærsamfélagið. Um land allt starfa öflugir Kiwanisklúbbar sem bjóða nýja félaga velkomna. Ef þú vilt láta gott af þér leiða, efla hæfni þína og þekkingu og um leið kynnast góðu fólki, byggja upp tengslanet

og eignast nýja vini, þá gæti Kiwanis verið vettvangurinn fyrir þig. Langar þig að vita meira? Hafðu samband við okkur á netfangið: kiwanis@ kiwanis.is


URBAN SKETCHERS LÝKUR SÍNU FYRSTA SUMRI Aðsend grein: Urban Sketchers

Fyrir þau sem vita kannski ekki enn hvað Urban Sketcher er: þá er þetta alþjóðleg hreyfing þar sem fólk hittist og teiknar á staðnum, úti í umhverfinu sem það er að upplifa. þeim sem fylgjast með okkur og bjóða okkur að teikna umhverfi sitt. Það er sannarlega mikil ánægja. Að lokum viljum við hvetja öll þau sem hafa áhuga til að koma á þá teiknisamkomu sem þeim hentar. Það eina sem þarf að taka með er skissubók, blýant og löngunina til að teikna. Ef einhver vill bjóða okkur að teikna í húsakynnum sínum eða veit um einhvern áhugaverðan stað sem við gætum heimsótt, má hafa samband við okkur. Fylgist einnig með okkur á Instagram @uskhofn, á Facebook undir Urban Sketcher Höfn eða sendið okkur tölvupóst á uskhofn@gmail.com.

Kolbrún, Heiðrún, Lísa og Aida með teikningarnar sínar

Í apríl ákváðum við að stofna þennan teiknihóp á Höfn og reyna að gera hann að opinberum hópi innan Urban Sketcherssamfélagsins. Ég tel að við höfum verið að standa okkur nokkuð vel, þar sem við höfum hist um hverja helgi og jafnvel á virkum dögum þegar sérstök tilefni hafa verið, eins og Humarhátíð, sjómannadagurinn og þjóðhátíðardagurinn. Við höfum líka fengið tækifæri til að hitta alþjóðlega Urban Sketchers meðlimi. Í þessu tilfelli voru tvær samkomur haldnar í Gömlubúð með teiknurum frá Ameríku og Englandi. Ef það er frábær upplifun að deila tíma með sínum venjulega teiknihópi, þá er enn skemmtilegra að deila honum með fólki frá öðrum stöðum. Við þurfum líka að þakka öllum þeim sem buðu okkur að teikna í görðunum sínum, á veröndum sínum eða á heimilum sínum og gáfu okkur þannig tækifæri til að kynnast þeim, sjá verk þeirra og festa þau á blað í skissubókunum okkar. Þar má til dæmis nefna Sólbakka og Stjörnustöðina. Við höfum einnig séð hótel og kaffihús

frá öðru sjónarhorni, eins og Hrafnavelli, Hoffell, Brunnhól, Viking Café og Café Vatnajökull. Einnig höfum við víkkað sjóndeildarhringinn út fyrir Höfn, fórum í Lónið, Mánagarð og í Öræfasveit, þar sem Býflugnabærinn opnaði dyr sínar fyrir okkur og við deildum teikningum og sögum. Við vorum einnig svo heppin að fá að kynnast sögunni í Kvískerjum. Þessir síðustu mánuðir hafa verið stöðugt ævintýri: að finna daginn og staðinn, kynnast nýju fólki, deila áhugamálinu okkar og læra með því að æfa okkur, spjalla saman og kynnast nýjum aðferðum og efnum. En umfram allt snýst þetta um að kynnast samfélaginu og svæðinu sem við búum á í gegnum ólík sjónarhorn sem við festum í skissubækurnar okkar. Við ljúkum sumrinu með sýningu á skissubókunum okkar þann 30. ágúst. Jafnframt hefjum við vetrarstarfið, þar sem við vonumst til að halda áfram að hittast aðra hverja viku, en í þetta sinn innandyra. Við viljum þakka af öllu hjarta öllum

Hópurinn hefur hist hverja helgi í sumar

EYSTRAHORN

11


KYNNUMST YFIR KVÖLDVERÐI Í SVEITARFÉLAGINU HORNAFIRÐI Aðsend grein: Nýheimar Þekkingarsetur

Nýheimar þekkingarsetur leiðir nú tilraunaverkefni undir hatti félagsins Gefum íslensku séns, sem er stutt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Gefum íslensku séns starfar á landsvísu og stendur meðal annars fyrir vitundarvakningu sem beint er að íslenskumælandi íbúum. Félagið hvetur þá sem tala íslensku til að hjálpa nýjum íbúum að læra með því að sýna þolinmæði og tala málið við þá. Hugmyndin að verkefninu Kynnumst yfir kvöldverði er einföld. Lagt er upp með að skapa hlýjan og persónulegan vettvang þar sem fólk kemur saman yfir heimilismat og gefst kostur á að kynnast, deila sögum, menningu og lífsreynslu, spila á spil eða eiga góða stund á þann hátt sem þátttakendum finnst passa best. Heimafólki í Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin eingreiðsla til þess að kaupa inn í kvöldmáltíð og bjóða nýjum íbúum sveitarfélagsins af erlendum uppruna heim til sín í mat. Þessi kvöldstund getur veitt

Gefum íslensku séns í Sveitarfélaginu Hornafirði Kynnumst yfir Kynnumst yfir kvöldverði! Upplýsingar og Upplýsingar og skráning skráning í QR kóðanum. kóðanum.

nýjum íbúum tækifæri til þess að stíga fyrstu skrefin í íslenskunámi og dýpka skilning á samfélaginu í gegnum samveru og óformlegt spjall. Þátttaka gefur heimamönnum kost á að kynnast nýjum nágrönnum sínum og fræðast um bakgrunn þeirra. Markmiðið með verkefninu er að styrkja samfélagið, efla tengsl á milli íbúa og skapa jákvæða upplifun af því að tilheyra sama samfélagi. Fyrirkomulagið er þannig að þú skráir þína fjölskyldu og tilgreinir hversu mörg þið eruð í heimili og á hvaða aldri börnin eru, ef það á við. Einnig hakar þú við á hvaða tímabili þið gætuð hugsað ykkur að taka á móti gestum. Tekið skal fram að einstaklingum og vinum er velkomið að taka þátt og vera gestgjafar. Við hjá Nýheimum þekkingarsetri höfum síðan samband þegar við höfum fengið skráningu nýrra íbúa og pörum saman við skráningu heimafólks. Gert er ráð fyrir að skráningu gestgjafa ljúki um miðjan september og máltíðirnar fari fram í október eða nóvember, eftir hentugleika hvers og eins. Lagt er upp úr að íslenska verði notuð í bland við ensku, eins mikið og hægt er, þannig að gott flæði skapist en íslenskan sé til staðar. Langar þig að aðstoða nýja íbúa sveitarfélagsins við menningarlæsi og fyrstu skref í íslenskunámi? Býrð þú á Höfn, í Suðursveit, Öræfum, Lóni, Nesjum eða á Mýrum og vilt taka á móti nýjum íbúum í kvöldmat í eitt skipti? Skráning gestgjafa fer fram í gegnum QR-kóðann, eða með því að senda póst á eva@nyheimar.is.

Hjólhýsa- og tjaldvagnaleigan

Húsbílar í Lækjarhúsum

STÓRAUKIÐ PLÁSS

Opið fyrir innsetningu 1.–7. september og aftur 18.–21. sept. fyrir eftirlegukindurnar Tekið út 1. maí 2027 Skráningarfrestur til 15. september. Heimboð í október eða nóvember.

Verð: 12.000 kr. metrinn Hafið samband: Ragnar – 844 6621 eða Axel – 892 2743

12 EYSTRAHORN


Útihúsgögn.is

Útsala á garðbekkjum 20% AFSLÁTTUR

Haustútsala hefst 1. september

Glúmur

Falleg, Sterk og stöðug Handsmíðuð húsgögn úr gæðavið

fjúka ekki

Freyr

Skoðaðu úrvalið og hafðu samband info@utihusgogn.is

EYSTRAHORN

13


ÁTTATÍU ÁRA SAGA AÐ BAKI Aðsend grein: Skinney-Þinganes, Arnþór Gunnarsson

Litið yfir farinn veg á afmælisári Skinneyjar-Þinganess Eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu kom nýtt fiskiskip, Ásgrímur Halldórsson SF 250, til heimahafnar á Hornfirði í vor. Fjölmenni tók á móti skipinu enda telst það ævinlega til tíðinda þegar ný fiskiskip koma til hafnar í íslenskum sjávarplássum. Skipið er 1.528 brúttórúmlestir að stærð, smíðað hjá dönsku skipasmíðastöðinni Karstensens og sérhannað til veiða á uppsjávartegundum. Aðbúnaður um borð er hinn vandaðasti og tækjakostur sömuleiðis. Skipið er í eigu útgerðarfélagsins Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn og kom í stað eldra skips sem orðið var 25 ára gamalt. Nýja skipið er hið þriðja í röðinni sem ber nafn Ásgríms Halldórssonar kaupfélagsstjóra á Höfn frá 1953 til 1975. Ásgrímur var jafnframt einn af stofnendum útgerðarfélagsins Skinneyjar en það var eitt þriggja fyrirtækja sem mynduðu grunninn að Skinney-Þinganes. Skinney-Þinganes var stofnað árið 1999 við samruna Borgeyjar, Skinneyjar og Þinganess. Borgey var elst þessara fyrirtækja og jafnframt elsta starfandi útgerðarfyrirtækið á Höfn, stofnað árið 1946 af Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga og um 20 einstaklingum. Framan af gerði Borgey út einn vertíðarbát og síðar tvo. Um miðjan níunda áratuginn var starfsemin efld með kaupum á skuttogara. Síðar voru keyptir tveir vertíðarbátar til viðbótar og annar skuttogari. Kaupfélagið var eftir sem áður stærsti fiskverkandinn á Höfn auk þess að reka fjölþætta verslunar- og þjónustustarfsemi. Þegar fór að halla undan fæti hjá kaupfélaginu upp úr 1990 tók Borgey yfir allan sjávarútvegsrekstur þess. Þar með var Borgey komin í hóp stærri sjávarútvegsfyrirtækja landsins. En róðurinn var þungur og í árslok 1992 var reksturinn kominn í þrot. Fyrirtækið þurfti að losa sig við báða togarana ásamt miklum bolfiskkvóta. Að lokinni greiðslustöðvun, nauðasamningum og endurfjármögnun

14 EYSTRAHORN

Frystihús og höfuðstöðvar Skinneyjar-Þinganess á Höfn. Stóra byggingin í baksýn er sjálfvirk frystigeymsla sem nýlega var tekin í gagnið. Hún rúmar 12 þúsund tonn af afurðum

Síldarsöltun á Höfðanum í tíð Borgeyjar

lagði fyrirtækið megináherslu á veiðar og vinnslu á síld og loðnu. Þetta lofaði góðu til að byrja með en síðan sótti í sama farið. Í byrjun árs 1999 tóku útgerðarfyrirtækin Skinney og Þinganes höndum saman og keyptu meirihluta í Borgey. Síðar sama ár

voru fyrirtækin þrjú formlega sameinuð undir nafninu Skinney-Þinganes. Útgerðarfélögin Skinney og Þinganes voru dæmigerð fjölskyldufyrirtæki eins og flestar aðrar útgerðir á Höfn, hið fyrrnefnda


Skinney SF 30 við löndun

Skinney-Þinganes gerir út eitt uppsjávarskip, þrjú togveiðiskip og einn línubát og hefur fyrirtækið látið smíða öll þessi skip fyrir sig. Það starfrækir einnig þrjár verksmiðjur: fiskimjölsverksmiðju og vinnslustöðvar á Höfn, þar sem unninn er uppsjávarfiskur, bolfiskur og humar, og í Þorlákshöfn þar sem unninn er bolfiskur. Mikið er lagt upp úr verðmætasköpun og sjálfbærni, meðal annars með fullnýtingu afurðanna, endurvinnslu og orkusparnaði.

stofnað árið 1968 og hið síðarnefnda fjórum árum síðar. Bæði fyrirtækin gerðu út vertíðarbáta og frá árinu 1987 rak Skinney einnig fiskvinnslu. Þótt afkoma fyrirtækjanna væri yfirleitt bærileg gat hún þó verið býsna breytileg frá ári til árs eins og flestra annarra útgerðarfyrirtækja landsins. Kom þar margt til, meðal annars misjöfn aflabrögð og breytingar á úthlutun aflakvóta, verðsveiflur á afurðum og sveiflur í gengi krónunnar. Það var því aldrei á vísan að róa með reksturinn. Meiri stöðugleiki hefur jafnan verið í afkomu Skinneyjar-Þinganess en forveranna þriggja. Þar vegur þungt að eftirspurn eftir fiskafurðum hefur um árabil verið mikil og afurðaverð yfirleitt gott, gengissveiflur eru jafnan minni en á árum áður og íslenskt efnahagslíf er orðið styrkara. Þá hefur kvótakerfið í sjávarútvegi fest sig í sessi og stuðlað að bættri afkomu stórra útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja.

Langstærsti hluti framleiðslunnar er seldur úr landi, aðallega til ríkja í Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Hlutdeildarfélög Skinneyjar-Þinganess, Iceland Pelagic ehf. og StorMar ehf., annast sölu á stærstum hluta afurða fyrirtækisins erlendis. Skinney-Þinganes á nokkur dótturfélög og eiga þau hlut í nokkrum öðrum félögum. Félög innan samstæðunnar standa meðal annars fyrir laxeldi, rekstri kúabús og rekstri og leigu fasteigna. Meðal hlutdeildarfélaganna er Laugafiskur sem starfrækir fiskþurrkunarverksmiðju á Reykjanesi. Verksmiðjan nýtir jarðhita úr nærliggjandi borholu við þurrkun fiskhausa og beingarða. Skinney-Þinganes er stærsti einstaki vinnuveitandinn á Höfn með 283 ársverk árið 2025. Fyrirtækið leggur áherslu á samfélagslega ábyrgð og hefur stutt margs konar verkefni í því skyni. Má þar nefna að fyrirtækið stóð fyrir byggingu fjölnota íþróttahúss og gaf húsið til sveitarfélagsins árið 2012. Þá var fyrirtækið helsti bakhjarl Björgunarfélags Hornafjarðar og

Slysavarnardeildarinnar Framtíðarinnar við byggingu nýs húsnæðis undir starfsemi félaganna. Á undanförnum árum hefur SkinneyÞinganes unnið að þróun nýs miðbæjar á Höfn í samvinnu við Batteríið arkitekta. Vegna húsnæðiseklu á staðnum hefur Skinney-Þinganes einnig staðið fyrir uppbyggingu á húsnæði fyrir starfólk sitt, bæði með nýbyggingum og endurnýjun eldri húsa. Starfsfólkinu hefur verið gefinn kostur á að leigja eða kaupa húsnæðið. Af þessu má sjá að Skinney-Þinganes er með mörg járn í eldinum og lætur sig ýmislegt varða í nærsamfélaginu eins og oft er raunin með stór fyrirtæki. Saga fyrirtækisins endurspeglar líka þróun sem átt hefur sér stað í íslenskum sjávarútvegi síðastliðin 80 ár þar sem smærri útgerðum hefur fækkað en stærri sjávarútvegsfyrirtæki hafa orðið enn stærri. Þá heyra útgerðir með samvinnufélagsformi, eins og Borgey, líka sögunni til og ýmislegt fleira mætti nefna í þessu sambandi. Í vor hélt Skinney-Þinganes upp á að 80 ára afmæli sitt með því að bjóða starfsfólki sínu og eigendum, ásamt mökum, til Möltu. Með því vildi fyrirtækið líka þakka starfsfólkinu fyrir þeirra framlag til rekstursins. Það er ekki bara góð efnahagsleg afkoma sem skapar öflugt fyrirtæki heldur einnig auðurinn sem felst í hæfu og góðu starfsfólki.

EYSTRAHORN

15


SUMARLESTUR Á BÓKASAFNINU Aðsend grein: Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Í sumar var öllum börnum boðið að taka þátt í Sumarlestrarverkefni á bókasafninu okkar í Nýheimum. Verkefnið er sameiginlegt með flestum almenningsbókasöfnum á landinu sem þýðir að þó að einhverjir hafi farið á flakk í sumarfríinu þá gátu börnin ávallt komið við á bókasafni á ferðum sínum og kíkt á sumarlesturinn. Verkefnið snérist um Gúnda Geithafur og ævintýri hans. Börnin fengu afhent vegabréfið hans Gúnda og áttu að hjálpa honum að komast frá Heimahögum, þar sem ekki eitt stingandi strá var að finna og yfir til Grænuhlíðar þar sem allt var fagurgrænt. Með því að lesa í 15 mínútur færðist Gúndi á milli staða og fyrir hvern klukkutíma af lestri gátu börnin kíkt á bókasafn, fengið stimpil í vegabréfið og Happamiða sem þau skildu eftir á bókasafninu sínu. Við vorum svo heppin að í lok júlí kíkti enginn annar en Gunnar Helgason til okkar á Menningarmiðstöðina og las uppúr nokkrum af bókunum sínum og spjallaði við krakkana. Þetta gerði hann til að vekja athygli og áhuga á sumarlestrinum og Gunna var mjög vel tekið af hornfirskum börnum. Þó svo að það hafi verið hásumar, og margir á flakki um og út fyrir landsteinana, var húsfyllir hjá okkur og mikið hlustað og hlegið. Við þökkum Gunna enn og aftur fyrir komuna og skemmtunina. Nú er farið að síga á seinni hluta sumarlestursins enda skólarnir komnir í gang og flestir komnir með heimalesturs

Gunnar Helgason las fyrir krakkana á bókasafninu

bækur frá kennurum sínum. Við á Menningarmiðstöðinni ætlum því að bjóða öllum börnum frá Höfn, sem tóku þátt í Sumarlestrinum, að koma til okkar og taka þátt í Uppskeruhátíð Sumarlestursins. Hátíðin fer fram laugardaginn 12. september kl. 13:00 á bókasafninu í Nýheimum og öll börn sem skiluðu inn Happamiða fá þátttökuverðlaun. Að auki munum við draga út einn heppinn lestrarhest sem dreginn verður úr lukkupotti sem inniheldur

alla Happamiðana, og fær viðkomandi veglegan vinning að launum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á bókasafninu í Nýheimum, laugardaginn 12. september kl. 13:00 Starfsfólk bókasafnsins

Gunnar gefur eiginhandaráritanir til ungra aðdáenda

16 EYSTRAHORN


Linguistic practises in a tourism-driven context

Hvað finnst þér um ensku? Rannsókn um íslensku, ensku og samfélag í Sveitarfélaginu Hornafirði Mannfræðineminn Eugénie eða „Jenný“ er nú að ljúka rannsóknarverkefni sínu. Íbúar eru hjartanlega velkomnir á opinn kynningarfund þar sem helstu niðurstöður verkefnisins verða kynntar og ræddar.

Öll velkomin

Þetta verður tækifæri til að ræða og deila reynslu af tungumáli í Hornafirði Mánudaginn 14. september kl. 18:00 Staðsetning: Gamlabúð

Nemandi : Eugénie Parent

EYSTRAHORN

17


Veggjald á nýjum Hringvegi um Hornafjörð Nýr vegur – styttri leið

Gjaldtaka hefst í september 2026 Hringvegur(1) styttist um

Dæmi um kostnað fyrir fólksbíl 10 ferðir á mán.

Að meðaltali 975 kr. á ferð

20 ferðir á mán.

Að meðaltali 863 kr. á ferð

40 ferðir á mán.

Að meðaltali 469 kr. á ferð

Hvað kostar að aka veginn?

12 km

Ökutæki undir 3,5 Stök ferð

1.500 kr. á ferð

Aksturstími styttist um

2-5 ferðir í mánuði

950 kr. á ferð

6-22 ferðir í mánuði

750 kr. á ferð

Hámarksgjald á ökutæki

18.750 kr. á mán.

15-20 mín

Hvernig virkar gjaldtakan? → Gjaldtakan er 100% sjálfvirk → Myndavélar lesa bílnúmer við akstur → Reikningur birtist í heimabanka mánaðarlega → Ekki þörf á skráningu → Hægt að borga stakar ferðir á spolur.is

Ökutæki 3,5 til 7,5 tonn

Afsláttarkjör fyrir reglulega notendur

Stök ferð

2.100 kr. á ferð

2-5 ferðir í mánuði

1.330 kr. á ferð

6-22 ferðir í mánuði

1.050 kr. á ferð

Hámarksgjald á ökutæki

26.250 kr. á mán.

Ökutæki yfir 7,5 tonn

→ Lægra gjald eftir því sem ferðum fjölgar → Hámarksgjald á mánuði fyrir bíla undir 7,5 t.

Stök ferð

4.500 kr. á ferð

Af hverju er tekið veggjald? Viðborðsfjall nýs Hringvegar um Hornafjörð. Veggjaldið er hluti af fjármögnun Tekjurnar standa undir hluta af kostnaði við byggingu, rekstur og viðhald mannvirkisins. Ketillaugarfjall

Ho rna fja t

ells

rfljó

H o ff

rða

Nesjahverfi

Skógey

Br ú D yfi jú r pá

Nýr vegur – styttri leið

Br ú Be yfi rg r á

Hrísey Hornafjörður

rg

á

Árnanes

Landoddar

Einholt

Be

B H rú y off fi el r ss á

Tjörn l ól nh un Stóraból r B

18 EYSTRAHORN

La

jó t Fifursker

Spölur

Seljavellir

rfl

á

B H rú y or fi na r rf ja rð a

úp

xá

á

Dj

Hagi

Hringtorg

www.spolur.is | www.vegagerdin.is

Hringvegur (1) styttist um Aksturstími styttist um

12 km

15-20 mín


VINNUSTOFA TENGILIÐA FARSÆLDAR Aðsend grein: Skúli Ingibergur Þórarinsson

Miðvikudaginn 19. ágúst sl. komu saman tengiliðir farsældar ásamt starfsfólki stuðningsþjónustu leik-, grunn- og framhaldsskóla í sveitarfélaginu. Tengiliðir farsældar starfa í skólum okkar ásamt heilsugæslu og félagsþjónustu. Til að leiða vinnustofuna komu sérfræðingar frá Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) sem voru bæði með kynningu á farsældarþjónustu og stýrðu öflugri vinnustofu þar sem rýnt var í verkfæri farsældar með úrvinnslu raunhæfra dæma. Nú þegar eru málefni um 50 barna í samþættri þjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þessi þjónusta fer ýmist fram hjá tengilið í skóla, á heilsugæslu eða hjá félagsþjónustu, í gegnum málstjórn þar sem málsstjórar félagsþjónustu stýra farsældarteymum fjölskyldna, eða í málstjórn hjá barnaverndarþjónustu. Þetta

Vinnustofan var haldin í Ekrusalnum

þýðir að um 10% barna í sveitarfélaginu njóta nú þegar samþættrar þjónustu. Í erindi sérfræðinga BOFS kom hins vegar fram að á landsvísu sé áætlað að málefni allt að 20% barna í hverju sveitarfélagi eigi erindi í samþætta þjónustu. Það er því ljóst að þótt innleiðing laganna gangi vel hér í Hornafirði erum við staðráðin í að gera enn betur og ná til fleiri barna og fjölskyldna á réttum tíma. Farsældarþjónusta er ávallt veitt á forsendum og með samþykki fjölskyldna. Við viljum því hvetja alla foreldra og börn, sem telja sig hafa hag af stuðningi eða samþættingu þjónustu, til að setja sig í

samband við tengilið í sínu nærumhverfi. Nöfn og tengiliðaupplýsingar ásamt frekara fræðsluefni um farsældarþjónustu má finna á heimasíðu sveitarfélagsins: https://www.hornafjordur.is/farsaeldbarna. Frábær andi ríkti á vinnustofunni og voru þátttakendur sammála um að dagurinn hafi verið afar gagnlegt og hvetjandi innlegg fyrir komandi vetur. Tengiliðir farsældar eru fullir tilhlökkunar að hefja störf af krafti eftir sumarleyfi og taka hlýlega á móti öllum sem óska eftir samtali um hvernig farsældarþjónusta getur stutt við fjölskyldur.

EYSTRAHORN

19


VIÐBURÐARDAGATAL HVAÐ ER UM AÐ VERA? Laugardagur 5. september

10:00 Kjötsúpumót á Golfvelli Hornafjarðar 13:00 Opið í Hirðingjunum til kl.15:00 14:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl.16:00 14:00 Sindri - Tindastóll á Jökulsfellsvelli. Síðasti heimaleikur sumarsins

Miðvikudagur 9. september

13:00 Starfsmaður félagsþjónustunnar verður í Ekru og aðstoðar 60 ára og eldri sem óska eftir að svara könnun um heilsueflingu til kl. 14:30 16:30 Ganga á vegum Ferðafélags Austur-Skaftfellinga um Þorgeirsstaðaklif í Lóni. Lagt af stað frá tjaldsvæðinu á Höfn. Frítt er í ferðina 18:00 Aðalfundur Kvennakórs Hornafjarðar á Heppu

Laugardagur 12. september

09:00 Ganga á vegum Ferðafélags Austur-Skaftfellinga á Hnappavöllum. Lagt af stað frá tjaldsvæðinu á Höfn, hægt að mæta beint við réttina á Hnappavöllum kl. 10:00. Frítt er í ferðina 10:00 Bæjarmálafundur XD Hornafirði í Sjalla til kl. 12:00 10:00 Opið hús Skinneyjar-Þinganess í Krossey í tilefni 80 ára afmælis. Skoðunarferðir um starfsstöðvar og léttar veitingar til kl. 15:00 12:30 Urban Sketchers hittast og teikna saman í Nýheimum. Allir velkomnir 13:00 Uppskeruhátíð Sumarlestursins á bókasafninu í Nýheimum

Sunnudagur 13. september

11:00 Sunnudagaskóli í Hafnarkirkju 14:00 Messa í Stafafellskirkju og messukaffi að Hrafnavöllum 17:00 Bliss Quintet + Björg & Þorkell í Gömlubúð. Miðaverð 3500 krónur, ekki tekið við kortum

Laugardagur 26. september

13:00 Urban Sketchers hittast og teikna saman á Heppu. Allir velkomnir Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Sunnudagur 27. september

11:00 Sunnudagaskóli í Hafnarkirkju 13:00 Kynningarmessa í Hafnarkirkju þar sem sagt verður frá helstu liðum messunnar 20:00 Messa í Hofskirkju Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Mánudagur 28. september

Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Þriðjudagur 29. september

Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Miðvikudagur 30. september

15:00 Bókaklúbbur á bókasafninu: Synt með þeim sem drukkna eftir Lars Mytting Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

MARTÖLVAN er opin

Miðvikudagur 16. september

17:00 12 spora starf Vina í bata hefst í Hafnarkirkju. Fyrstu fjórir fundirnir eru opnir

Fimmtudagur 17. september

20:00 Fyrsta æfing og kynning Kórals í Sindrabæ. Opið öllum frá 16 ára aldri

Miðvikudagur 23. september

Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Fimmtudagur 24. september

Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Föstudagur 25. september

Ýmiss konar viðburðir tengdir Hreyfiviku, sjá dagskrá á www. hornafjordur.is

Er viðburður framundan sem þú telur að eigi heima hér? Hafðu samband eystrahorn@eystrahorn.is

20 EYSTRAHORN

alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-17


SEPTEMBER FASTIR LIÐIR Mánudagar 20:50 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn Þriðjudagar 10:30 Krílakaffi á bókasafninu Miðvikudagar 13:00 Prjónakaffi á bókasafninu til kl. 15:00 Fimmtudagar 13:30 Hreyfing í vatni hjá eldri borgurum í Sundlaug Hafnar 16:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl. 18:00 16:30 Opið í Hirðingjunum til kl. 18:30 Laugardagar 13:00 Opið í Hirðingjunum til kl. 15:00 fyrsta laugardag hvers mánaðar 14:00 Opið í Fló fatamarkaði til kl. 16:00 fyrsta laugardag hvers mánaðar Sunnudagar 10:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn 13:00 Samkoma í Hvítasunnukirkjunni á Höfn

EYSTRAHORN STYRKTARAÐILD Engin lágmarksupphæð

Skannaðu QR-kóðann eða hringdu í síma 867-6604

Hirðingjarnir nytjamarkaður Opið alla fimmtudaga frá kl. 16:30 - 18:30 & fyrsta laugardag í hverjum mánuði frá kl. 13:00 - 15:00

AÐALFUNDUR

KVENNAKÓRS HORNAFJARÐAR Langar ÞIG að taka þátt í skemmtilegu kórastarfi? Framundan er spennandi vetur hjá okkur og allar hressar konur eru hjartanlega velkomnar!

Miðvikudag

9. september 2026

KL. 18:00 Heppa Resturant Veitingar verða í boði!

Kvennakór Hornafjarðar

13. sept. Sunnudagaskóli kl. 11:00 13. sept. kl. 14:00

Messa í Stafafellskirkju og messukaffi að Hrafnavöllum

27. sept. kl. 11:00

Sunnudagaskóli

27. sept. kl. 13:00

Kynningarmessa þar sem sagt verður frá helstu liðum messunnar

27. sept. Messa í Hofskirkju kl. 20:00 Verið velkomin til kirkju Sjá nánar á Facebook þegar nær dregur Birt með fyrirvara um breytingar

EYSTRAHORN

21


Do you know what waste services are available to you? Rural households have access to several waste collection services throughout the year, covered by the annual waste management fee at no additional charge.

1

2

3

Regular household waste collection

Agricultural plastic

Hazardous waste + small electronics

Every 4 weeks

3 times per year

Once per year

Mixed waste · Paper · Plastic

For agricultural plastic from farms

Paint · Chemicals · Batteries · Small electrical items

You need to: Check the collection dates and make sure the plastic is properly packed and ready for collection

You need to: Check your collection calendar and make sure your bins are accessible during collection week

4 Tyres + large electronics Once per year Tyres · Refrigerators · Washing machines · Larger electrical appliances You need to: Check your collection calendar and make sure your bins are accessible during collection week

You need to: Check the collection dates and make sure the waste is properly packed and ready for collection

5

Sorting center Available year round

Scrap metal

For waste that isn't included in regular/special rural collections

Once per year, on request only Opening hours:

Monday–Thursday: 13:00-17:00 You need to: Register for collection with the municipality

Saturdays: 10:00-14:00 Closed Fridays and Sundays Location: Sæbraut 1, Höfn

Fylgstu með sorphirðudögum/Check your collection dates Blönduðum úrgangi og pappír dreifbýl/ Mixed waste and paper collection Plast dreifbýli/Plastic collection

Heyrúlluplast+textíl/Agricultural plastic+Textile collectio

Spilliefni frá heimilum & smærri raftæki + textíl / Hazardous waste & small electronics + Textile collection Söfnunardagar geta breyst vegna veðurs eða annarra aðstæðna./Collection dates may change due to weather or other conditions.

22 EYSTRAHORN


on

n

Sorpþjónusta í dreifbýli Hornafjarðar · 1/3

Veist þú hvaða sorpþjónusta stendur þér til boða? Heimili í dreifbýli hafa aðgang að ýmis konar sorphirðuþjónustu allt árið sem er innifalin í árlegu sorpgjaldi án viðbótarkostnaðar.

1

2

3

Reglubundin sorphirða frá heimilum

Heyrúlluplast

Spilliefni frá heimilum + smærri raftæki

Á 4 vikna fresti

3 sinnum á ári

Einu sinni á ári

Blandaður úrgangur · Pappír · Plast

Söfnun á heyrúlluplasti frá býlum

Málning · Efnavörur · Rafhlöður · Smærri raftæki

Þú þarft að: Fylgjast með sorphirðudagatalinu og tryggja gott aðgengi að tunnum í sorphirðuvikunni

Móttöku- og flokkunarstöðin

Þú þarft að: Fylgjast með söfnunardögum og ganga frá plastinu á viðeigandi hátt svo það sé tilbúið til söfnunar

Þú þarft að: Fylgjast með söfnunardögum og ganga frá efnunum á viðeigandi hátt svo það sé tilbúið til söfnunar

5

4

Opin allt árið

Hjólbarðar + stærri raftæki

Brotajárn

Tekur á móti úrgangi sem ekki er sóttur í reglubundinni sorphirðu eða sérstakri söfnun í dreifbýli

Einu sinni á ári

Einu sinni á ári · Aðeins eftir beiðni

Opnunartímar:

Hjólbarðar · Ísskápar · Þvottavélar · Stærri raftæki

Mánudaga–fimmtudaga: 13:00-17:00 Laugardaga: 10:00-14:00 Lokað föstudaga og sunnudaga Staðsetning:

Sæbraut 1, Höfn

SKRÁNING OG BEIÐNIR REGISTRATION & REQUEST

470 8000 afgreidsla@hornafjordur.is xiaoling@hornafjordur.is

Þú þarft að: Fylgjast með söfnunardögum og ganga frá plastinu á viðeigandi hátt svo það sé tilbúið til söfnunar

Þú þarft að: Skrá þig fyrir söfnun hjá sveitarfélaginu

Nánari upplýsingar á netinu More information online Skannaðu til að sjá flokkunarleiðbeiningar, sorphirðudagatal, opnunartíma og nýjustu upplýsingar Scan for the full sorting guide, collection dates, opening hours and latest updates

EYSTRAHORN

23


KÖNNUN

UM HEILSUEFLINGU fyrir 60 ára og eldri í Sveitarfélaginu Hornafirði Í tengslum við Framtíðarsýn í málefnum aldraðra 2026-2034 sem samþykkt var í bæjarstjórn í upphafi árs 2025, var skipaður spretthópur sem hefur það hlutverk að meta gæði og framtíð verkefnisins “Heilsuþjálfun Höfn” og heilsueflingu eldri borgara almennt á Hornafirði. Verkefni hópsins er m.a. að fara yfir þá heilsueflingu og hreyfingu sem nú þegar er í boði og kanna hvað íbúar 60 ára og eldri telja að bæta þurfi við. Af því tilefni biðjum við fólk 60 ára og eldra taka þátt í stuttri könnun um málefnið. Með svörunum fær spretthópurinn betri mynd af áhuga og þörfum íbúa og hvað fólk vill sjá í boði í framtíðinni. Könnunin er nafnlaus og tekur aðeins nokkrar mínútur að svara. Við hvetjum einnig aðstandendur, vini og kunningja til að vekja athygli fólks 60 ára og eldra á könnunni og aðstoða við að svara ef þörf er á. Miðvikudaginn 9. september nk. milli kl. 13:00-14:30 verður starfsmaður félagsþjónustunnar í Ekru og veitir þeim sem óska aðstoð við að svara könnunni. Þátttaka sem flestra skiptir máli. Með því að svara getur þú haft áhrif á hvernig heilsuefling fyrir 60 ára og eldri þróast í sveitarfélaginu. Hlekk á könnunina má nálgast með því að skanna QR kóðann með símanum. Einnig má finna frétt og hlekk á könnunina á vef Sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is. Með þakklæti og kveðju F. h. spretthóps. Ragnheiður Rafnsdóttir Verkefnastjóri Iðju og dagþjónustu

Hlekkur á könnunina

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is

24 EYSTRAHORN


KÓRALL NÝR KÓR FYRIR ALLA Aðsend grein: Kórall

Þegar hugmynd verður til þá er ekki víst að hún verði að veruleika, en sumar hugmyndir eru einfaldlega of góðar til að láta þær framhjá sér fara. Nýr kór er að líta dagsins ljós á haustdögum sem einblínir á tónlist og samheldni. Kórastarfið í sveitarfélaginu er nú þegar mjög metnaðarfullt og við hlökkum til að vera með í því.

AF HVERJU KÓRALL? Vantar fleiri kóra í Hornafjörð? Mögulega ekki, en við ákváðum samt að stofna einn slíkan. Kórinn Kórall er opinn öllum kynjum, viljum við sérstaklega ná til yngra fólks og um leið skapa hóp þar sem ólíkir aldurshópar mætast og syngja saman. Markmiðið er því ekki að búa til kór fyrir einn aldurshóp umfram annan, heldur fjölbreyttan hóp þar sem ungt fólk getur líka fundið sinn stað. Kórinn er ætlaður öllum frá 16 ára aldri. Við viljum að Kórall sé sterkur félagslegur vettvangur, en tónlistin verður alltaf í forgrunni í öllu starfinu. Við ætlum að vinna markvisst með raddir og samhljóm og byggja upp metnaðarfullan kór. Til þess að búa til metnaðarfullan kór þá er mikilvægt að kórmeðlimum líði vel saman og að það myndist góður og samheldinn hópur. Kórall á líka að vera opinn vettvangur fyrir fólk sem er nýtt í samfélaginu. Við viljum sérstaklega bjóða íbúum af erlendum uppruna og þau sem eru nýflutt til Hornafjarðar velkomin. Ætlunin er að syngja bæði á íslensku og ensku og vonandi getur kórinn orðið ein leið til að kynnast nýju fólki og verða hluti af samfélaginu.

NÝ TÓNLIST OG NÝJAR ÚTSETNINGAR Tónlistin verður í hjarta starfsins og okkur langar að skapa Kóral ákveðna sérstöðu. Við viljum velja fjölbreytt og skemmtileg lög og leggja áherslu á vandaðan flutning og metnaðarfullar útsetningar.

Frá vinstri Björg, Birna, Sigrún og Stefanía

Eitt af því sem okkur þykir sérstaklega spennandi er að fá ungt hornfirskt tónlistarfólk til liðs við okkur við að útsetja tónlist sérstaklega fyrir kórinn. Þannig verður Kórall líka vettvangur fyrir tónlistarsköpun og samstarf við tónlistarfólk hér í Hornafirði. Nemendum sem stunda nám við Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu gefst færi á að fá kórastarfið metið til eininga. Við vonumst jafnframt til þess að kórinn geti með tímanum tekið þátt í fjölbreyttum viðburðum, staðið fyrir eigin tónleikum og verkefnum og þannig lagt sitt af mörkum til öflugs og fjölbreytts menningarlífs í Hornafirði.

VERTU MEÐ! Það sem er kannski mest spennandi við Kóral er að kórinn er enn í mótun. Það er gríðarlega spennandi tækifæri að fá að taka þátt í að móta kórinn frá grunni og við viljum bjóða ykkur að vera með. Þetta er nýtt verkefni og við ætlum að leyfa því að þróast, en við erum með skýrt markmiðið: að byggja upp metnaðarfullan, fjölbreyttan og góðan kór sem getur orðið hluti af öflugu tónlistar- og menningarlífi Hornafjarðar.

til að vinna bæði með kórinn sem heild og raddirnar innan hans. Fyrsta æfing og kynning verður fimmtudaginn 17. september kl. 20:00 í Sindrabæ. Þar verður hugmyndin að Kóral verði kynnt betur, við syngjum okkar fyrsta lag saman og tökum raddprufur. Kórall er rétt að byrja að taka á sig mynd og nú vantar okkur raddirnar sem eiga eftir að móta hann. Við hlökkum til að hitta ykkur! Ef þú hefur einhverjar spurningar þá er velkomið að hafa samband við okkur í gegnum korinnkorall@gmail.com eða senda okkur skilaboð á Messenger. Hlökkum til að sjá ykkur! Söngkveðjur, Birna Jódís Magnúsdóttir Björg Catherine Blöndal Sigrún Birna Steinarsdóttir Stefanía Dröfn Vopnfjörð Ingólfsdóttir

Stefnt er að því að æfa einu sinni í viku og verða einnig raddæfingar aðra hverja viku til að byrja með. Þannig gefst tækifæri EYSTRAHORN

25


OPIÐ HÚS Í tilefni 80 ára afmælis Skinneyjar-Þinganess bjóðum við þér/ykkur að fagna með okkur Laugardaginn 12. september kl. 10-15 í Krossey Boðið verður upp á skoðunarferðir um starfsstöðvar og léttar veitingar

NAFNASAMKEPPNI

Hvað á nýja frystigeymslan að heita? Verðlaun veitt fyrir það nafn sem verður fyrir valinu Tillögur skulu berast á eva@sth.is fyrir 10. september

26 EYSTRAHORN


LEIKFÉLAG HORNAFJARÐAR OG VETURINN 2026-2027 Aðsend grein: Leikfélag Hornafjarðar

Leikfélagið stefnir að sjálfsögðu að ýmsu núna í vetur og við óskum alltaf eftir áhugasömum þátttakendum í stærri verkefni, minni verkefni eða bara til að styðja okkur. Eins og áður stefnum við á eitt stórt leikverk þar sem metnaðurinn verður mikill og öllu verður tjaldað til.

Mynd af leikhópnum sem setti upp leikritið Gleðilega Hátíð í fyrra

TÍMARAMMI Á STÓRA VERKEFNINU Áætlaður frumsýningardagur er 6. mars og mun undirbúningurinn hefjast fyrir alvöru á góðri vinnuhelgi 8.–10. janúar. Þá verður hópurinn hristur saman og í kjölfarið hefst kröftugt æfingaferli. Við stefnum á að upplýsa meira um þetta strax í október og þá tilkynna hvaða leikverk verður fyrir valinu. Við leggjum ávallt áherslu á sýningar sem blanda saman kynslóðum, tónlist og alls konar listformum. Leikstjóri verkefnisins verður enginn annar en Hornfirðingurinn Aron Martin Ásgerðarson. Stefnt er að lokasýningu 20. mars. Einnig langar okkur að standa fyrir öflugri söngleikjaskemmtun í lok nóvember. Þar er takmarkið að safna saman okkar frábæra fólki og halda tónleika þar sem þemað verður, eins og fyrr segir, söngleikjalög. Slíkt verkefni krefst að sjálfsögðu æfinga og því erum við enn að móta hvenær það ferli hefst.

TÆKNINÁMSKEIÐ Við stefnum einnig á tækninámskeið 16.–18. október, þar sem farið verður yfir helstu tæknimál leiksviðsins. Þar verður meðal annars lögð áhersla á hljóð- og ljósbúnað og þau forrit kynnt sem halda svona sýningum gangandi.

ÖNNUR VERKEFNI Við erum líka að kanna hvort við getum fundið tíma fyrir meira improv í samstarfi við Improv Ísland og að sjálfsögðu langar okkur alltaf að gera meira en minna. Ef þið hafið áhuga á að taka þátt í einhverju af þessu hvetjum

Svipmyndir úr Lísu í undralandi

við ykkur eindregið til að skanna QRkóðann hér til hliðar og skrá ykkur. Við hlökkum til að sjá ykkur!

EYSTRAHORN

27


BARNA- OG UNGLINGASTARF Í SVEITARFÉLAGINU Aðsend grein: Ágústa Margrét Arnardóttir

Kofabyggðin vakti mikla lukku hjá krökkunum í sumar

ÞRYKKJAN Sú nýjung var í sumar að börnum í 5.-7. bekk bauðst að vera í kofabyggð, skólagörðum og sköpun með starfsmanni félagsmiðstöðvarinnar í stað þess að vera inni í Þrykkunni eins og undanfarin sumur. Markmiðið var að hvetja til meiri útivistar hjá þessum aldri þar sem þau gætu haft eitthvað skemmtilegt fyrir stafni. Þetta var ágætlega sótt og full ástæða til að vinna áfram. Nú er hefðbundið hauststarf Þrykkjunnar hafið. Nemendum í 8.-9. bekk býðst að vera í Þrykkjunni í hádeginu en 10. bekk býðst að vera í mat í mötuneytinu í Fas. Þetta er spennandi nýjung með það að markmiði að tengja 10. bekkinga í litlum skrefum við framhaldsskólann og minnka álagið í mötuneyti grunnskólans. Þrykkjan er opin fyrir 5.-10. bekk alla virka daga milli kl. 14:10- 16:00. Klúbbastarf verður alla virka daga milli kl 16:00-17:00 nema mánudaga, þá er það

28 EYSTRAHORN

kl 17:00-18:00. Þrykkjan er opin fyrir 8.-10. bekk mánudags.-, miðvikudags.- og föstudagskvöld kl 19:30-22:00. Starfið í Þrykkjunni er fjölbreytt og margt hægt að gera t.d. pool, borðtennis, fótboltaspil, píla, föndur, sköpun og fleira. Þrykkjuráðið gerir dagskrá í samvinnu við starfsfólk en lögð er mikil áhersla á að maður er manns gaman, að hugmyndir og framkvæmd komi frá börnunum sjálfum og mikil áhersla lögð á samveru án snjalltækja. Í samvinnu við nemendaráð FAS verður Þrykkjan opinn öll fimmtudagskvöld kl. 19:30-22:00 næstu 2 mánuði til reynslu, og ef vel gengur og mæting verður góð mun FAS halda þessum tíma í Þrykkjunni. Þannig að við hvetjum ungmenni til að mæta í Þrykkjuna næsta fimmtudag.

GÆSLA, FRÍSTUND OG SUMARNÁMSKEIÐ: Í sumar sá sveitarfélagið um gæslu milli kl. 8-9 á morgnana og frístund milli kl. 13-16 í Kátakoti yfir 6 vikna tímabil, voru

þá einnig í boði námskeið milli kl. 9-12 sem félagasamtök og einstaklingar sáu um. Börn í 1.-4. bekk þar sem þau gátu valið um fótbolta, körfubolta, leiki og frjálsar íþróttir, dans, leiklist, listsköpun, fab lab, vísindasmiðju og kofabyggð á Höfn. Í Öræfum var líka boðið upp á tveggja vikna námskeið með fjölbreyttum viðfangsefnum t.d. klifri, kajak, kofabyggð, listsköpun og fleiru. Yfir 350 skráningar voru á námskeiðin. Í lok leiklistar- og dansnámskeiða voru settar upp sýningar fyrir nánustu ættingja og stigu tveir dansarar af námskeiðinu á svið á Humarhátíð með glæsilegt dans atriði. Námskeiðin teygðu sig því út í menningar- og listalífið og upp reis einnig heil kofabyggð. Kofabyggðin var samstarfsverkefni sveitarfélagsins sem skaffaði svæði þar sem börn gátu látið hugmyndaflug, verkvit og framkvæmdargleði blómstra með aðstoð og stuðningi frá fullorðnum einstaklingum. Markmiðið var samt að börnin gerðu þetta á sinn hátt sem þau svo sannarlega gerðu og risu um 15 fjölbreyttir kofar á svæðinu í sumar. Við


Þrykkjan og Kátakot haust 2026 Tími

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

12:20 - 13:00

Hádegis hangs 8.- 9. bekkur

Hádegis hangs 8.- 9. bekkur

Hádegis hangs 8.- 9. bekkur

Hádegis hangs 8.- 9. bekkur

Hádegis hangs 8.- 9. bekkur

13:10 - 16:00

Kátakot 1.- 4. bekkur

Kátakot 1.- 4. bekkur

Kátakot 1.- 4. bekkur

Kátakot 1.- 4. bekkur

Kátakot 1.- 4. bekkur

14:10 - 16:00

Opið hús 5.- 10. bekk

Opið hús 5.- 10. bekk

Klúbbastarf 5. B blandað

Opið hús 5.- 10. bekk

Opið hús 5.- 10. bekk

Klúbbastarf 5.-7. B stelpur

Klúbbastarf 6. B blandað

16:00 - 17:00

17:00 - 18:00

Klúbbastarf 5.- 7. B strákar

19:30 - 22:00

Opið hús 8.- 10. bekkur

Opið hús 8.- 10. bekkur

Klúbbastarf 7. B blandað

Opið hús FAS

Opið hús 8.- 10. bekkur

hvetjum íbúa til að kíkja í byggðina sem mun standa á meðan veður leyfir og börnin eru enn að byggja. Það er í boði fyrir öll börn að nýta sér svæðið og halda áfram með sína kofa, eða byrja á nýjum. Þau eru á eigin ábyrgð og því hvetjum við foreldra til þess að fara með þeim og eða fylgjast vel með að allt gangi sem allra best. Því miður kom fyrir að kofar og fleira var eyðilagt í sumar, en með góðu samtali og samvirkni allra minnkum við líkurnar á því. Kofabyggðin er sameign þar sem börn eru að byggja upp sitt eigið samfélag með stuðningi og aðstoð fullorðinna.

VINNUSKÓLI SUMARSINS Vinnuskóli sveitarfélagsins var í boði frá 8. júní- 31. júlí. Alls störfuðu 45 unglingar úr 7.-10. bekk og sjö flokksstjórar við skólann og unnu fjölbreytt störf. Þetta er meiri fjöldi en starfað hefur í vinnuskólanum undanfarin ár og fögnum við því. Andinn var góður og mörg verk unnin til að fegra og snyrta bæinn okkar. Einnig fengu ungmennin ýmiss konar fræðslu, hvetjandi fyrirlestur og lögð var áhersla á hópefli í gegnum leik og starf. Eins og undanfarin ár endaði vinnuskólinn á útilegu og fóru ungmennin þetta árið í ofsalega vel heppnaða ferð á Hala. Við kveðjum sumarið með þakklæti til allra sem komu að barna- og ungmennastarfinu og bjóðum haustið velkomið með fullt af spennandi verkefnum og viðburðum.

Ýmislegt var brallað í sumar

STUÐNINGSFJÖLSKYLDA Félagsþjónusta Hornafjarðar auglýsir eftir stuðningsfjölskyldu sem boðið getur barni inn á heimili sitt í 1-4 sólarhringa í mánuði í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu og styrkja stuðningsnet barnsins. Um er að ræða úrræði veitt á grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks og barnaverndarlaga.

EINSTAKLINGSSTUÐNINGUR, FÉLAGSLEG LIÐVEISLA Félagsþjónusta Hornafjarðar auglýsir eftir einstaklingum til að sinna einstaklingsstuðningi með börnum. Markmið með einstaklingsstuðningi er að rjúfa félagslega einangrun, efla lífsleikni, samfélagsþátttöku, efla börn til aukinnar sjálfshjálpar og létta álagi af fjölskyldu og barninu sjálfu. Ungt fólk, 18 ára og eldra, af öllum kynjum er sérstaklega hvatt til þess að sækja um. Um er að ræða úrræði veitt á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og barnaverndarlaga. Fyrir nánari upplýsingar má senda tölvupóst á saedisosp@hornafjordur.is eða hringja í síma 470-8011

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is

Krakkarnir í skólagörðunum

EYSTRAHORN 29


ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Nú þegar nýr hluti Skjólgarðs hefur verið vígður er vel við hæfi að setjast niður með tveimur starfsmönnum sem eiga að baki einstaklega langan starfsaldur þar. Þær Elísabet Einarsdóttir og Ólöf Óladóttir, eða Beta og Óla, eiga hvorki meira né minna en rúmlega 45 ára starfsaldur að baki en báðar hófu þær störf á Skjólgarði árið 1981. Þær hafa því unnið á Skjólgarði í þrenns konar húsakynnum ásamt því að hafa hjúkrað og unnið með þremur kynslóðum. Fyrsta spurning mín var því hvort allt væri þegar þrennt væri. Vinkonurnar hlógu bara og sögðu að það væri aldrei að vita nema þær næðu að vinna með fjórða ættliðnum næsta sumar. Þrátt fyrir að þær séu báðar komnar formlega á eftirlaunaaldur eru þær hvergi nærri hættar að vinna. Beta og Óla kynntust í Sjúkraliðaskólanum í Reykjavík og hafa meira og minna fylgst að síðan. Báðar fluttu þær austur á Höfn til að elta kærastana. Beta rifjar upp hvernig Óla kynnti hana fyrir kærastanum: „Ólöf kom alveg á föstu suður í skóla, þannig að ég kalla hana bara góða að fara í skólann. Svo kynntumst við tvær í skólanum og svo fórum við bara á djammið og þar var fullt af Hornfirðingum og þar kynntist ég Alla.“ Eftir útskrift í janúar 1981 fluttust þær báðar austur og hófu störf á Skjólgarði þá um vorið. Á þessum tíma var Skjólgarður í húsunum við Hvannabraut 3–5 og aðbúnaðurinn töluvert annar en sá sem við þekkjum í dag. Húsin tvö voru ekki tengd saman og þurfti því starfsfólkið að fara út til að komast á milli þeirra. Í öðru húsinu voru herbergi, stofa og lítið eldhús þar sem meðal annars var eldaður grautur fyrir heimilisfólkið, sem borðaði saman í stofunni. Í hinu húsinu voru herbergi fyrir þau sem voru hressari og þar var einnig matsalur. Herbergin voru lítil og yfirleitt tveir í hverju herbergi. Þegar Skjólgarður flutti á Víkurbraut árið 1996 fannst þeim því breytingin gríðarleg, þó enn væru tveir í herbergi. Það segir sitt um hversu mikið tíðarandinn hefur breyst. Í dag

30 EYSTRAHORN

Myndir með frægum. Óla og Beta ásamt Kristrúnu Frostadóttur, við vígslu Skjólgarðs

þykir tveggja manna herbergi tæplega ásættanlegt á hjúkrunarheimili og í nýjasta hluta Skjólgarðs eru eingöngu einstaklingsherbergi. „Á þessum tíma voru koppar undir flestum rúmum,“ rifja þær upp og bæta við:

þær séu sammála um að þegar öllu er á botninn hvolft sé manneskjan sjálf alltaf sú sama. Smátt og smátt var aðstaðan á Hvannabraut byggð upp, húsin tengd saman og fleiri byggingar teknar undir starfsemina. „Við kölluðum það útihúsin,“ rifja þær upp.

„Það átti hver sinn kopp. Ef rétta sprungan var ekki í koppnum þá átti hann ekki koppinn.“ Koppunum var reglulega komið fyrir í einum stórum suðupotti og þeir þvegnir þannig. Smátt og smátt lagðist þetta af en fyrstu starfsárin voru þær stöllur meðal annars að hjúkra fólki sem hafði fæðst undir lok 19. aldar og alist upp við allt aðrar aðstæður, meðal annars í torfbæjum. Í dag sinna þær kynslóð sem hefur alist upp við allt annan veruleika og kann jafnvel vel á ýmis snjalltæki. Á þessum 45 árum hafa þær því séð ótrúlegar breytingar, þó

Óla og Beta á Skjólgarði stuttu eftir að þær hófu störf


Beta og Óla lengst til vinstri

Ég spyr þær hvort starfið hafi verið ólíkt því sem það er í dag. Þær segja að fólk hafi almennt komið mun fyrr inn á Skjólgarð en nú. „Það hefði getað búið heima miklu lengur ef það hefði verið í boði,“ segja þær og vísa þar meðal annars til þess að heimaþjónusta var ekki komin til sögunnar með sama hætti og síðar varð. Á þessum tíma voru það nær eingöngu konur sem störfuðu við umönnunina og vinnufatnaðurinn var sömuleiðis allt annar en í dag. Fyrst voru það hvítir sloppar og nælonsokkabuxur, síðar hvítar buxur og sloppar. Í dag er hins vegar lögð áhersla á að umhverfið sé sem heimilislegast og starfsfólk klæðist því eigin fötum. Smátt og smátt fóru karlar einnig að sinna störfum á Skjólgarði, þó þeir hafi lengst af verið fáir, og starfsmannahópurinn hefur jafnframt orðið mun fjölbreyttari að uppruna. „Núna eru líka mun fleiri erlendir starfsmenn. Áður voru bara íslenskumælandi starfsmenn,“ segja þær. Það hafi reynt á tungumálakunnáttuna en jafnframt kennt þeim ýmislegt. „Við erum svo gamlar og lélegar í tungumálum en höfum lært heilmikið. Maður er orðinn frakkur að bjarga sér – maður bjargar sér!“ Margt annað í daglegu starfi hefur líka breyst. „Fyrstu 20 árin var líka allt gert frá grunni; slátur á haustin, kæfa, sulta, allt bakað,“ segja þær og það leynir sér ekki að þær hugsa með hlýju til baka til þess tíma.

Íbúar á Skjólgarði baka saman fyrir jólin

Nú hafa þær báðar minnkað við sig niður í 50% starf, en það virðist ekkert liggja sérstaklega á þeim að hætta. Þær viðurkenna meira að segja að hafa beðið eftir nýja hluta Skjólgarðs. „Mér fannst ég verða að vinna á nýja staðnum,“ segir Beta og Óla tekur undir. Þær sjá Myndir með frægum. Óla og Beta í Hirðingjunum ásamt Dr. Gunna fyrir sér að vinna þær segja það sérstakt áhugamál að ná mynd af sér með frægum eitthvað áfram, mögulega fram á milljónir króna frá upphafi. næsta haust, meðan heilsan leyfir. Þegar talið berst að því hvað taki við Þó starfsævin á Skjólgarði taki einhvern á næstu árum er ljóst að þær eru hvergi tímann enda verður varla setið auðum nærri hættar. Betu langar meðal annars höndum. Hugmyndin að Hirðingjunum að taka þátt í að fegra bæinn en Óla sér kviknaði einmitt á kvöldvakt á Skjólgarði jafnvel fyrir sér að fara í göngutúra með árið 2012. Upphaflega var markmiðið leikskólabörnum. að safna fyrir húsgögnum og öðru fyrir Beta segist varla þora að segja það en Skjólgarð og fyrsta gjöfin voru gluggatjöld í lætur svo vaða: borðstofuna. Fljótlega þurfti þó að færa út kvíarnar og síðan hafa Hirðingjarnir styrkt fjölmörg verkefni í Hornafirði. Um næstu áramót stefnir í að þeir hafi gefið um 50

„Mig dreymir um að hjálpa krökkunum í sumarvinnunni að gera beðin í bænum fallegri.“

Þegar þær eru spurðar hvað hafi orðið til þess að þær hafi enst svona lengi á sama vinnustað eru þær fljótar til svars. „Mjög góður vinnustaður,“ segja þær. Starfið sé gefandi, samstarfsfólkið hafi verið gott og þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á í gegnum árin hafi þær yfirleitt hlakkað til að mæta í vinnuna.

Í spjallinu kviknar því hugmynd að samfélagsverkefni þar sem íbúar taka sig saman um að sinna beðum og ruslatínslu í okkar fallega umhverfi.

Framkvæmdir við Skjólgarð 17. ágúst 1982

„Ætli ég verði ekki bara að fylgja henni,“ segir Óla. „Við höfum alltaf fylgst að,“ svarar Beta. EYSTRAHORN

31


SAMFÉLAGSSÁTTMÁLI UM BÆTTA LÍÐAN UNGMENNA Í HORNAFIRÐI Aðsend grein: Skúli Ingibergur Þórarinsson, fjölskyldufræðingur

Nýverið var ég í sumarfríi í hitabylgju við Miðjarðarhafið. Í hitanum varð manni ekki mikið úr verki svo ég lagðist í lestur. Fyrir valinu varð Kvíðakynslóðin eftir Jonathan Haidt. Þótt ég ætli ekki að skrifa bókmenntagagnrýni fangaði efnið mig og kom huganum á hreyfingu, enda var hitinn of mikill til líkamlegrar hreyfingar. Í grófum dráttum fjallar bókin um áhrif snjalltækja, internetsins og samfélagsmiðla á geðheilbrigði þeirra kynslóða sem hafa alist upp með þeim allt frá tilkomu IPhone á markaðinn árið 2007. Eftir lesturinn langaði mig að kanna hvernig við stöndum hér í Sveitarfélaginu Hornafirði. Því miður eru ekki til rannsóknir um líðan ungmenna allt aftur til ársins 2007, enda hefði ég ekki lagt í að vinna svo

ítarlegan samanburð í þessari hitabylgju. Við höfum hins vegar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar fyrir Grunnskóla Hornafjarðar á árunum 2023– 2026. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna aukningu á samfélagsmiðlanotkun og neteinelti hjá yngri árgöngum, þar sem 69% nemenda í 5. bekk (samanborið við 43% árið 2023) nota samfélagsmiðla mjög eða frekar oft og 24% barna í 4.–5. bekk hafa orðið fyrir einelti á netinu. Samhliða þessu kemur fram aukning á andlegri vanlíðan og kvíða á elsta stigi grunnskólans. Í 10. bekk hefur hlutfall nemenda sem finna fyrir kvíða vikulega eða oftar tvöfaldast á milli áranna 2023 og 2026 (úr 22% í 50%). Svefntruflanir og seinkun á háttatíma hafa einnig aukist, en 34% nemenda í 8.–10. bekk fara að sofa eftir miðnætti á skóladögum. Svefnvandi hefur aukist sérstaklega hjá drengjum í 8.–10. bekk (úr 12% í 23%) og stúlkum í 6.–7. bekk (úr 5% í 23%), á meðan hlutfall stúlkna í 8.–10. bekk með svefnvanda helst áfram mjög hátt (43%). Ánægjulegt er þó að sjá að svefnvandi hefur minnkað umtalsvert hjá drengjum í 6.–7. bekk, eða úr 38% í 6%. Þótt ekki sé svo að skilja að hér sé allt í báli og brandi, enda er staðan

32 EYSTRAHORN

hér yfirleitt sambærileg við landsmeðaltal, verður maður samt að spyrja sig hvað sé til ráða. Höfundur bókarinnar leggur til fjögur ný samfélagsviðmið, 1. enga snjallsíma fyrir 16 ára aldur, 2. enga samfélagsmiðla fyrir 16 ára aldur, 3. símalausa skóla og 4. aukið frelsi og frjálsan leik barna. Innleiðing símafrís í skólum er ágætis skref, en afmarkað verkefni skólasamfélagsins dugar þó skammt til að bæta andlega líðan eða bæta svefnvenjur. Til þess þarf heildstæða nálgun sem nær einnig til heimilis og frítíma barna. Ég hvet foreldra til að sameinast um gerð bekkjarsáttmála, en leiðbeiningar má finna á www.sterkariutilifid.is. Sáttmálinn er hugsaður sem verkfæri til að samræma viðmið meðal foreldra varðandi til dæmis snjallsíma, skjátíma, samfélagsmiðla, svefn og símalausar samverustundir. Slíkur sáttmáli skapar einnig vettvang til að ræða stafræna hegðun, friðhelgi, myndbirtingar og áhrif samfélagsmiðla og áhrifavalda á sjálfsmynd barna.

Ég tel að Hornafjörður hafi ákveðið forskot, sterkt nærsamfélag, mikið frelsi, fjölmörg tækifæri til frjáls leiks og öflugt tómstunda- og íþróttastarf. Í gögnum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar má sjá augljósa verndandi þætti, nær allir nemendur í 6.–10. bekk segjast eiga góða vini og 79% barna í 6.–10. bekk æfa íþróttir reglulega. Markmiðið ætti því að snúa að því að nýta þessa verndandi þætti, takmarka tíma barnanna okkar fyrir framan skjáinn og um leið að skipta þeim tíma út fyrir eitthvað uppbyggilegra, bættar svefnvenjur, sterk vinatengsl, aukna samveru, útiveru og frjálsan leik. Til þess þarf sameiginlegt átak og samfélagssáttmála þar sem tekið er höndum saman um bætta líðan ungmenna í Hornafirði.


Heyrnarþjónusta síðan 2007

534-9600 heyrn.is

VINIR Í BATA

12 spora starf 12 spora starf – Vinir í bata – hefst í Hafnarkirkju miðvikudaginn 16. september kl. 17:00 - 19:00 Fyrstu fjórir fundir sporanna eru opnir og er það hugsað fyrir þá sem vilja kynna sér starfið og athuga hvort það hentar viðkomandi. Starfið er ekki bundið við fólk með fíknisjúkdóm, heldur ætlað öllum þeim sem vilja leitast við að auka lífsgæði og heilbrigði í eigin lífi. Leiðbeinandi er Sveinbjörg Jónsdóttir, djáknakandidat. Ef einhverjar spurningar vakna er sjálfsagt að hafa samband í síma 869 2364

HAPPY HOUR

FRÁ 18–20

LJÚFFENGT BARSNARL

GIRNILEGAR GLEÐISTUNDIR Á BARNUM Við bjóðum upp á létta og ljúffenga rétti af snakkseðli, alla daga frá 18–22. Barinn er opinn alla daga frá 16–23 og frá 18–20 eru drykkir á tilboðsverði. Á Verbúðarbarnum er gott að slaka á og njóta útsýnis yfir sjóinn. Við hlökkum til að sjá ykkur!

verbudarbarinn

EYSTRAHORN

33


JÖKULLINN ER HORNFIRÐINGA Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Ný jöklasýning, Glaciers of Höfn, var opnuð í húsnæði veitingastaðarins Heppu á Höfn 14. ágúst síðastliðinn. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, opnaði sýninguna formlega við athöfn þann dag. Sýningin hefur verið um tvö ár í þróun, og sameinar fræðslu, sýndarveruleika og kvikmyndina After Ice. Eystrahorn fékk þá Þorgrím Tjörva Halldórsson og Hilmar Stefánsson, sem standa að sýningunni, til að svara nokkrum spurningum um tilurð hennar, þróunarferlið og fyrstu viðbrögð gesta. Hugmyndin að sýningunni þróaðist þó í nokkrum skrefum og byrjaði raunar á allt öðrum stað. Upphaflega voru þeir Hilmar og Elvar Unnsteinsson að velta því fyrir sér hvort hægt væri að nýta gamalt frystirými í húsinu undir ísbar. Þar áttu að vera útskornir skúlptúrar úr jökulís og jafnvel hægt að fá ískaldan drykk í viðeigandi umhverfi. Hugmyndin reyndist þó ekki eins einföld í framkvæmd og virtist í fyrstu. Kostnaðurinn við að halda frystikerfum hússins gangandi varð til þess að horfið var frá henni og farið að leita annarra leiða til að nýta rýmið. Þá kviknaði hugmynd um einhvers konar íshellaupplifun með myndvörpum. Þorvarður Árnason kom inn í samtalið, en

Opinn fundur um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón var á undan formlegri opnun sýningarinnar.

Hilmar og Elvar höfðu jafnframt mikinn áhuga á kvikmyndinni After Ice, sem Þorvarður framleiddi ásamt Kieran Baxter og sýnir breytingar á jöklum í nágrenni Hornafjarðar. Þorvarður fékk Kieran með í verkefnið og þar fór boltinn fyrir alvöru að rúlla. Hugmyndin þróaðist yfir í sýndarveruleikaupplifun og tók við um tveggja ára þróunarferli. Kieran Baxter leiddi hönnun og þróun VR-hlutans ásamt Ástu Olgu Magnúsdóttur og Hans Welling hjá Into the Blue. „Það var í raun ekki fyrr en í ársbyrjun 2026 sem við sáum öll myndskeiðin raðast saman í eina heild. Þegar búið var að tengja þau saman, bæta við hljóði og lesa textann yfir varð okkur eiginlega fyrst ljóst hvað hafði orðið til,“ segja þeir.

Jóhann Páll opnaði sýninguna formlega

34 EYSTRAHORN

Þróun og uppbygging sýningarinnar var að mestu í höndum Hilmars Stefánssonar. Konstantin Allen Vlasis kom að hljóðheimi hennar og útvegaði meðal

annars upptökur úr jöklum, auk þess sem Þorvarður Árnason veitti ráðgjöf í gegnum ferlið. Við gerð fræðsluhlutans var meðal annars stuðst við efni úr verkefninu Hörfandi jöklar frá Vatnajökulsþjóðgarði.

AÐ GERA FRÆÐSLUNA AÐ UPPLIFUN Ein helsta áskorunin var að finna jafnvægi milli fræðslu og upplifunar. Mikið efni er til um íslenska jökla en það sem höfðar til vísindamanna og sérfræðinga er ekki endilega það sem nær til almennings. Markmiðið var því að miðla fróðleiknum á aðgengilegan hátt án þess að missa innihaldið. Þeir segja að auðvitað fylgi verkefnum af þessari stærðargráðu ýmsar fjárhagslegar áskoranir.


Sýnishorn úr sýndarveruleikanum. Myndin er samsett

„Töluverður kostnaður felst bæði í þróun sýningarinnar og kaupum á tæknibúnaði og við höfum að mörgu leyti þurft að renna blint í sjóinn.“ Næsta verkefni er að byggja upp orðspor Glaciers of Höfn og ná þeim gestafjölda sem þarf til þess að sýningin standi undir sér. Þeir gera ráð fyrir að það geti tekið allt að þrjú ár að byggja starfsemina upp þannig að hún verði sjálfbær til framtíðar.

GESTIR BÆÐI TÁRAST OG FINNA FYRIR LOFTHRÆÐSLU Fyrstu dagarnir eftir opnun hafa verið fremur rólegir, enda kynning á sýningunni rétt að hefjast, en viðbrögð gesta hafa verið góð. Sumir hafa sagt að ákveðin myndskeið í sýndarveruleikanum hafi hreinlega fengið þá til að tárast. Aðrir hafa þurft að setjast niður þegar lofthræðslan lét á sér kræla. Í VR-upplifuninni fylgir gesturinn hrafni yfir jöklana og upplifir þannig hæð, stærð og landslagið með öðrum hætti en annars væri mögulegt. Sýningin er jafnframt hugsuð sem heilsársafþreying. Þeir fengu forsmekk af því í slæmu veðri nýlega þegar aðsókn margfaldaðist. Einn gestur sagði þeim jafnframt að eftir heimsóknina hefði hann ákveðið að bóka sér jöklaferð.

Sýningin er mikil upplifun fyrir gesti

samstarfi við skóla og sveitarfélagið.

„Ef sýningin nær að fræða fólk um jöklana og á sama tíma hvetja það til að fara út og upplifa náttúruna sjálfa, þá erum við að gera eitthvað rétt.“

Margir minnast enn gömlu jöklasýningarinnar á Höfn og að þeirra mati á jöklasýning einfaldlega heima á svæðinu. „Jöklarnir eru hluti af sögu okkar, umhverfi okkar og sjálfsmynd. Jökullinn er Hornfirðinga.“

JÖKLASÝNING Á EINFALDLEGA HEIMA Á HÖFN Glaciers of Höfn er hugsuð sem varanleg sýning og þegar eru uppi hugmyndir um hvernig hægt verði að þróa hana áfram. Aðstandendur hennar sjá einnig tækifæri í fræðsluhlutverki sýningarinnar og hafa þegar fengið fyrirspurnir frá innlendum og erlendum skólahópum. Þá hafa átt sér stað samtöl við Grunnskóla Hornafjarðar og áhugi er á frekara

Kristrún Frostadóttir með sýndarveruleikagleraugun á sér

EYSTRAHORN

35


GOTT SUMAR AÐ BAKI Aðsend grein: Hjalti Þór Vignisson

Nú eru liðnir tæpir þrír mánuðir frá því að ný bæjarstjórn tók til starfa. Tíminn hefur verið nýttur til að hrinda mörgum verkum af stokkunum og undirbúa fleiri. Fyrsta verkið var að skerpa línur um ásýnd og umhirðu. Hagur heimila er okkur hugleikinn í erfiðu árferði. Nú þegar höfum við lækkað álögur á íbúa með því að fella niður fæðisgjöld á leikskólum og unnið er að undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár þar sem íbúar geta vænst lægri fasteignagjalda. Þá er fleira á teikniborðinu sem fær kynningu síðar.

SKÓLASTARF Haustinu fylgir oft ákveðin tilhlökkun, ekki síst þegar skólastarf hefst á nýjan leik. Við búum að góðu skólakerfi en við verðum sífellt að spyrja okkur að hvernig við getum bætt það. Sjaldan hafa fleiri börn verið á leikskólaaldri og starf í grunnskólum sveitarfélagsins er í góðum höndum. Í ár verður sú nýbreytni að 10. bekkur er í mat í Nýheimum ásamt nemendum framhaldsskólans og það er ekki annað að heyra en að almenn ánægja ríki um það. Í samstarfi við UMF Sindra verður boðið upp á íþróttaskóla fyrir börn í 1. og 2. bekk frá og með haustinu og ef vel gengur þá verður skoðað að bjóða upp á slíkt fyrir eldri börn í framtíðinni. Mikill þróttur er í starfi FAS og það er fullur ásetningur okkar að styrkja skólann í sessi. Í bígerð er sérstakt verkefni í samstarfi við Nýheima þekkingarsetur sem miðar að því að styrkja félagslíf ungs fólks á aldrinum 16–25 ára. Nemendagarðar eru einnig í sigtinu og gætu orðið mikilvægur liður í að efla skólann og gera ungu fólki auðveldara að velja nám hér.

FRAMKVÆMDIR Eitt fyrsta verk nýrrar bæjarstjórnar var að skipa að nýju í starfshóp um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Þar stendur yfir greining á þeim valkostum

36 EYSTRAHORN

Bæjarstjórn sveitarfélagsins. F.v: Reynir Ásgeirsson, Hjördís Edda Olgeirsdóttir, Ingibjörg Sveinsdóttir, Eyrún Fríða Árnadóttir, Gauti Árnason, Hjalti Þór Vignisson og Björgvin Óskar Sigurjónsson

sem uppi eru varðandi uppbyggingu íþróttahúss. Fleiri framkvæmdir eru í farvatninu eins og hafnarframkvæmdir, gatnagerð , malbikun og endurbætur á félagsheimilum. Það verður fjárfest fyrir milljarða á komandi árum og íþrótta- og skólamál verða þar í brenndepli.

HAGSMUNAGÆSLA Uppbygging við Jökulsárlón er brýn en sérstaklega er mikilvægt að vandað sé til verka við úthlutun rekstrarleyfa innan þjóðgarðsins. Að þessu hefur verið unnið ötullega í sumar. Ákvarðanir um starfsemi og uppbyggingu verður að taka mið af samfélaginu sem þjóðgarðurinn er hluti af. Jafnframt er mikilvægt að missa ekki sjónar á öðrum mikilvægum þáttum í starfi þjóðgarðsins eins og frekari uppbyggingu í Skaftafelli og uppbyggingu gestastofu á Höfn. Þessi málflutningur hefur náð eyrum ráðamanna. Nýr vegur var opnaður í sumar yfir Hornafjörð. Sú vegstytting er mikilvæg fyrir marga íbúa sem sækja þjónustu og menntun til Hafnar en líka fyrir þá sem sækja atvinnu vestur yfir Fljót. Við bjuggumst öll

við veggjöldum enda framkvæmdin hluti af lögum sem Alþingi setti um fjármögnun ýmissa vegbóta. Upphæðin er hins vegar úr hófi. Mikilvægast er að stórnotendur af veginum fái miklu meiri afslátt af ferðum yfir veginn en kynnt hefur verið. Þessum sjónarmiðum hefur verið haldið á lofti og áfram verður haldið.

ATVINNULÍFIÐ Sumarið hefur að mörgu leyti verið gott. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og gaman að sjá hve mikið líf var á svæðinu en mikill fjöldi innlendra og erlendra ferðamanna sótti okkur heim. Ferðaþjónustan hefur gengið vel og aflabrögð ágæt. Góð teikn eru á lofti varðandi humarstofninn sem eykur okkur bjartsýni að Höfn geti aftur skreytt sig sem hinn eini sanni humarbær landsins. Sveiflur í sjávarútvegi eru vel þekktar og á sama tíma og góðar fréttir berast af humrinum er mikil niðursveifla í makríl sem hefur sannarlega áhrif. Almennt er gott hljóð í bændum, þótt sú staða að enginn starfandi dýralæknir sé nú á svæðinu valdi eðlilega áhyggjum.


Íbúakosning er fyrirhuguð um uppbyggingu á vegum Landsbyggðar við hafnarsvæðið. Lagt er upp með að allar nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir um skipulag og samninga á haustdögum. Við þurfum að vanda okkur sérstaklega þegar stórar ákvarðanir eru teknar í dreifbýlinu. Áhrif einstakra framkvæmda geta þar verið hlutfallslega meiri í þéttbýlinu. Uppbygging við Skaftafell er gott dæmi. Um leið og við viljum vaxa og dafna verðum við því að gæta að því sem fyrir er. Vöxtur er ekki markmið í sjálfu sér nema hann styrki samfélagið til lengri tíma og almenn sátt ríki.

Unnið er að því að tryggja að nauðsynleg dýralyf séu aðgengileg á hverjum tíma og jafnframt þarf að finna varanlega lausn á dýralæknaþjónustu.

SKIPULAGSMÁL Unnið er að mörgum málum er tengjast skipulagi í sveitarfélaginu. Við

þurfum að fjölga lóðum eins og kostur er, bæði fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi og íbúðarhúsnæði. Nokkur spennandi verkefni eru nú á teikniborðinu og verði þau að veruleika má gera ráð fyrir töluverðri fjölgun starfa. Þá þurfum við jafnframt að vera tilbúin að taka á móti nýju fólki. Atvinnuuppbygging, húsnæðismál og þjónusta verða að haldast í hendur.

Verkefnin framundan eru því bæði mörg og fjölbreytt. Við eigum góð tækifæri til vaxtar en þau kalla líka á vandaðar ákvarðanir. Markmiðið hlýtur að vera að byggja upp öflugt samfélag þar sem atvinnulíf fær að dafna og stjórnvöld – hvaða nafni sem þau nefnast – standi með atvinnulífinu og hjálpi en hindri ekki vöxt þess og viðgang. Þá þurfum við góða almenna og opinbera þjónustu þannig að fólk sjái tækifæri til að búa, starfa og ala upp fjölskyldu á okkar góða stað.

ATVINNUHÚSNÆÐI

TIL LEIGU

244 fermetra atvinnuhúsnæði við Álaugarveg til leigu. Upplýsingar gefur Jón Þorbjörn Ágústsson í síma 897 9174.

Hafðu samband: Jón Þorbjörn 897-9174 EYSTRAHORN

37


NÝTT HJÚKRUNARHEIMILI VÍGT Á HÖFN Nýtt hjúkrunarheimili við Skjólgarð á Höfn var vígt á dögunum að viðstöddu fjölmenni. Með nýbyggingunni er stigið stórt skref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu í Hornafirði og gjörbreytist aðstaða bæði íbúa og starfsfólks. Nýbyggingin er fyrri áfangi stærra verkefnis sem felur einnig í sér umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði Skjólgarðs. Þegar framkvæmdum lýkur verða á heimilinu 30 hjúkrunarrými og þrjú sjúkrarými, auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og dagdvöl. Hjúkrunarrýmum fjölgar þá um sex. Samkomulag ríkis og sveitarfélags um byggingu nýs hjúkrunarheimilis var undirritað árið 2018 og fyrsta skóflustunga tekin í september 2022. BASALT arkitektar og EFLA verkfræðistofa hönnuðu heimilið, en við hönnun þess var meðal annars lögð áhersla á vistlegt umhverfi, góð útisvæði, einkarými íbúa og að nýta hið einstaka útsýni frá Skjólgarði. Við vígsluna færðu Hirðingjarnir Skjólgarði fjórar milljónir króna að gjöf. Hirðingjarnir hafa um árabil verið ötulir við að styðja við Skjólgarð og lagt heimilinu lið með gjöfum til ýmissa verkefna og búnaðarkaupa.

Glæsilegur útigarður er fyrir íbúa

38 EYSTRAHORN

Ragnar Þór Ingólfsson, Matthildur Ásmundardóttir, Þóra Hólm og Inga Sæland klipptu á borða við vígsluna

Þetta eru langþráð og mikilvæg tímamót. Hér mun fara vel um heimilisfólk

sagði Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri við vígsluna og þakkaði jafnframt starfsfólki Skjólgarðs fyrir þeirra þátt í að skapa gott heimili þrátt fyrir krefjandi framkvæmdatíma. Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri

Fjöldi manns var við vígsluna


Hirðingjarnir gáfu Skjólgarði 4 milljónir að tilefninu

Húsnæðið er hið glæsilegasta eins og sjá má af þessum myndum.

Frá vígslunni

Vigdísarholts, sagði vígsluna sérstaka ánægjustund og nýja heimilið færa aðstöðu íbúa og starfsfólks til nútímahorfs. Næsti áfangi verkefnisins er endurbætur á eldra húsnæði Skjólgarðs og verður sá hluti framkvæmdanna boðinn út sérstaklega. Íbúum verður boðið að koma og skoða nýja Skjólgarð í september. Nánari upplýsingar um heimsóknina verða auglýstar sérstaklega. - GÁS

EYSTRAHORN STYRKTARAÐILD Engin lágmarksupphæð

1.500 kr. á mánuði

2.500 kr. á mánuði

3.500 kr. á mánuði

Kíktu á eystrahorn.is og skráðu þig

EYSTRAHORN

39


Halló Höfn! Ert þú til í spennandi starf í nýju verslun okkar á Höfn? Við leitum að öflugu starfsfólki í fjölbreytt störf í nýrri og glæsilegri verslun á Höfn. Um er að ræða fullt starf og hlutastarf, starf á kassa, áfyllingar, ákveðnar deildir, baksvæði, vaktstjóra o.fl.

Fylltu út umsókn á kronan.is/atvinna Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026. Athugið að ráðningar hefjast fyrr þannig að við hvetjum áhugasama til þess að sækja tímanlega um.

Kíktu á kronan.is - Snjallar lausnir - Gott úrval - Lágt verð


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eystrahorn 7.tbl 2026 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu