

EYSTRAHORN
5. tbl. 44. árgangur 4. júní 2026

EYSTRAHORN ÞITT HÉRAÐSFRÉTTABLAÐ
su m a r
2 4 . J Ú N Í
6 t ö l u b l a ð E y s t r a h o r n s k e m u r ú t m i ð v i k u d a g i n n f y r i r H u m a r h á t í ð
E f n i o g a u g l ý s i n g a r s k u l u
b e r a s t í s í ð a s t a l a g i f ö s t u d a g i n n 1 9 j ú n í
ð f y r i r t i l k y n n i n g a r , v i ð b u r ð i o g t i l b ú i ð e f n i
E i n n i g v e r ð u r h æ g t a ð a u g l ý s a m e ð b o r ð u m o g m e r k t u k y n n i n g a r e f n i
F y l g s t u m e ð á
e y s t r a h o r n . i s

Ritstjóri Eystrahorns
Útgefandi: HLS ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Netfang: eystrahorn@eystrahorn.is
Sími: 867 6604
Heimasíða: www.eystrahorn.is
3 . S E P T E M B E R
F y r s t a b l a ð e f t i r s u m a r f r í k e m u r ú t f i m m t u d a g i n n 3 s e p t e m b e r
E f n i o g a u g l ý s i n g a r s k u l u b e r a s t í s í ð a s t a l a g i f ö s t u d a g i n n 2 8 á g ú s t
Styðjið við bakið á Eystrahorni
Eystrahorn er fríblað sem dreift er inn á öll heimili í Sveitarfélaginu
Hornafirði. Til að það megi halda áfram treystum við á stuðning frá fyrirtækjum og íbúum Skráðu þig sem styrktaraðila á eystrahorn is
Býrð þú utan Hornafjarðar?
Þá getur þú fengið blaðið sent heim frá 2 500 kr á mánuði
Skráðu þig á eystrahorn.is eða hafðu samband í síma 867-6604.
Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Prófarkalestur: Guðlaug Hestnes
Umbrot: Tjörvi Óskarsson
Forsíðumynd: Þorsteinn Roy, Hornafjarðarós
Prentun: Litlaprent
ISSN 1670-4126

HRÓSIÐ
Við hvetjum lesendur sem vilja hrósa eða þakka fyrir eitthvað í okkar samfélagi til að senda tölvupóst á eystrahorn@eystrahorn.is.
SAMFÉLAG SEM LÆTUR SIG VARÐA

Ég er þakklát félögum mínum í stjórnmálaflokkum sveitarfélagsins fyrir drengilega kosningabaráttu, og íbúum fyrir málefnalega umræðu í aðdraganda kosninga. Einnig er ég þakklát fólkinu sem gaf kost á sér í kjörstjórnir þennan dag, þrátt fyrir að seta í kjörstjórn hafi það í för með sér að þau missa af kosningakaffi framboðanna, en það er alltaf gaman að hitta mann og annan í kosningakaffi á kjördag.
Ég er líka þakklát Önnu Maríu á Hótel
Skaftafelli sem bauð upp á kosningakaffi, hið fyrsta sem haldið er í Öræfum. Frambjóðendur í Öræfum ætluðu að kaupa af henni kosningakaffi, en þegar kallað var eftir reikningnum vildi hún ekki rukka því hún var svo ánægð með hvað margir Öræfingar tóku sæti á framboðslistum.
Sigrún Sigurgeirsdóttir

HIRÐINGJARNIR

Ég vil gjarnan hrósa þeim fyrir góða þjónustu, liðlegheit og gott viðmót. Þær eru að vinna ómetanlegt starf í endurvinnslu, fyrir utan hvað þær vinna skemmtilegt starf fyrir safnara af öllu tagi.
Eva Sumarliðadóttir
Eystrahorn vill bæta við að Hirðingjarnir eru, eins og flestir sjálfsagt vita, nytjamarkaður þar sem allur ágóði rennur til góðgerðarmála í heimabyggð. Síðast, þann 2. apríl, gáfu þau eina milljón króna til Björgunarmiðstöðvar Hornafjarðar vegna nýrrar aðstöðu fyrir starfsfólk sjúkrabíla á svæðinu.

Björgunarfélag Hornafjarðar tekur á móti veglegri gjöf frá Hirðingjunum
Daglegar ferðir milli Hafnar og Reykjavíkur
Sími: 470 8220
Anna María eigandi Hótel Skaftafells
ÁRABÁTAÚTRÆÐI Í AUSTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
Aðsend grein: Sigríður Guðný Björgvinsdóttir, Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Sjósókn hefur verið einn af lykilþáttum í atvinnu- og samfélagssögu Austur-Skaftfellinga. Sjóróður var annar bjargræðisvegur sveitanna; ef hann brást gat orðið þröngt í búi á mörgum heimilum.

Þrátt fyrir hafnleysi, grynningar, sandburð og brim við suðausturströndina, nýttu heimamenn þá lendingarstaði sem best þóttu henta hverju sinni. Það þurfti glöggskyggni á sjávarlag, snör og samstillt handtök og viðhafa vinnubrögð sem best gæfust. Skipin voru árabátar; áttæringar og sexæringar voru „skip“, með 10-12 manna áhöfn, en fjórrónir voru „bátar“ og áhöfn þeirra 4-6 menn. Fiskað var á handfæri.
Bændur gerðu út báta í sameiningu og reru gjarnan sjálfir. Á hjáleigum hvíldu oft svokallaðar róðrakvaðir, þær fólu í sér að bændur skyldu leggja til mannskap á báta landeiganda gegn hlut í aflanum. Aflaskiptin voru að fornri venju, hver maður er á sjó fór eða gætti hesta í fjöru fékk einn hlut, formaður stundum formannshlut að auki og skipseigandi 2-4 hluti. Þar sem langt var til verslunarstaða var aflinn að jafnaði hertur til að spara salt
en síðar að mestu saltaður. Í bókinni
Atvinnuhættir
Austur-Skaftfellinga fjallar Páll Þorsteinsson um helstu útróðrastaði svæðisins og þróun þeirra í tímans rás.
Landnámabók getur hafskipahafnar við Hornafjörð, þegar á fyrstu öldum byggðar. Aðrar heimildir benda til að útræði um Hornafjarðarós hafi verið stundað fram á 18. öld. Um 1770 urðu miklar breytingar á ósnum og innan fjarðar vegna sandburðar og umskipti á straumum og farvegum. Sjóróður um ósinn varð erfiðari og hættulegri og lagðist að mestu af um tíma. Árið 1883 markaði tímamót í árabátaútgerð

Nesjamanna. Eftir harðindaárin 1881–1882 hófst sjósókn um Hornafjarðarós á ný og fiskaflinn varð mikilvægt framlag til fæðuöryggis heimamanna.

Uppsátur bátanna var við vestanverðan Leiðarhöfða þar sem þrjú til fjögur naust voru grafin inn í bakkann. Verbúðir voru engar, bændur komu að morgni dags gangandi eða ríðandi til róðra og héldu heim að kvöldi. Þetta sýnir vel hvernig sjósókn og búskapur voru nátengd daglegu lífi fólks. Með aukinni vélbátaútgerð á Höfn á fyrstu áratugum 20. aldar dró smám saman úr árabátaútgerðinni, um 1920 hafði hún að mestu lagst af við Hornafjörð. Frá Hornshöfn í Hornsvík, suðaustur af Horni í Nesjum stunduðu Nesjabændur sjóróðra allt frá öndverðu og fram yfir aldamótin 1900. Í sýslulýsingu frá 1746 er höfnin sögð „brúkanlegust í hægu norðri“, sem sýnir hversu notagildi hennar var háð veðri og vindáttum. Í Jarðabók Ísleifs Einarssonar frá 1708–1709 segir að þar hafi „til forna verið 20 verskálar“, sem bendir til umfangsmikillar útgerðar
Naust í Þorgeirsstaðaklifum við Papafjörð

á fyrri tímum. Munnmæli herma að Norðlendingar, einkum Skagfirðingar hafi haft verstöð undir Kambhorni og sáust tóftir hennar fram yfir miðja 20. öld.
Papós í Lóni gegndi einnig mikilvægu hlutverki í útræði og verslun á Suðausturlandi. Nafnið vísar til papa, írskra einsetumanna sem að líkindum dvöldu hér fyrir landnám norrænna manna. Þó Papós teldist illa fallinn sem framtíðarhöfn vegna grynninga og brims, álitu heimamenn staðinn vel hæfan til siglinga kaupskipa. Árin 1861–1897 var þar rekinn verslunarstaður og sigldu þangað um 100 smálesta seglskip með vörur. Papós var jafnframt helsti útróðrastaður Lónmanna vestan Jökulsár, með uppsátur í Þorgeirsstaðaklifum. Líkt og við Hornafjörð dró úr róðrum frá Papós þegar vélbátaútgerð efldist á Höfn.
Í Lóni var einnig stuðst við Bæjarós til útræðis en þó ekki reglubundin útgerð. Í sýslulýsingu 1746 segir að ósinn, eða útfall Jökulsár, hafi helst verið notaður til sumarútræðis.
Hvalneskrókur gegndi lykilhlutverki

í sjósókn Lónmanna austan ár. Þar var gott skjól í norðan og norðaustan áttum og lending talin góð fyrir árabáta. Þaðan var útræði frá fornu fari og samkvæmt munnmælum sóttu einnig Norðlendingar þaðan sjó, þegar á 16. öld. Árið 1912 var Hvalneskrókur löggiltur sem siglingahöfn og þangað bárust vörur bæði frá Hornafirði og Djúpavogi. Einar Einarsson bóndi á Hvalnesi var síðastur til að ýta úr vör við Hvalneskrók árið 1945.
Skinneyjarvík við Höfðasand austan Skinneyjarhöfða var aðal útróðrarstaðurinn á Mýrum. Til forna var víkin nefnd Mýrahöfn. Þaðan reru Mýramenn frá ómunatíð, auk bænda úr Suðursveit og stundum úr Nesjum þegar ekki var róið frá Horni. Þótti best að róa frá víkinni en annars staðar við sendna ströndina og afar fátítt að bátum hlekktist á við lendingu.
Í Suðursveit var Hálsahöfn við Hálsaós, þaðan var stundað útræði um aldir. Norðlendingar sóttu þangað sjó á vetrarvertíðum og höfðu verbúðir í Kambstúni. Sjósóknin reyndist ekki áhættulaus, frekar en frá fyrr nefndum útræðishöfnum. Í mars 1573 skall á skyndilegt ofviðri úti fyrir Hálsum og samkvæmt annálum drukknuðu 53 menn, en þjóðsögur nefna enn hærri tölu. Talið er að þetta mikla manntjón hafi átt þátt í því að útræði Norðlendinga við Hálsa lagðist af. Náttúrulegar breytingar höfðu einnig áhrif; sker sem áður virkuðu sem brimbrjótar sukku smám saman í sæ og lendingarskilyrði versnuðu. Eftir það færðist útræði í Suðursveit einkum yfir á Bjarnahraunssand.
Bjarnahraunssandur við Þrándarholt var aðal útróðrastaður Suðursveitunga hátt í 4 aldir. Um aldamótin 1900 var róið þaðan á fjórum sexæringum, á vetrarvertíð 1920 var fjórum áttæringum haldið úti. Það voru skipin Sæbjörg, Svanur, Vonin og Vongóður. Þó skjól fyrir úthafsbrimi finnist ekki við strönd Suðursveitar, hafa sjóslys í tengslum við útróður heimamanna orðið ótrúlega fá, miðað við aðrar útræðishafnir sýslunnar. Útgerð þaðan lagðist endanlega af árið 1964.
Ingólfshöfði var nýttur til útræðis þar sem nokkurt skjól myndaðist í Höfðavík við norðanverðan höfðann. Árið 1712 voru þar þrjú verhús, frá Hnappavöllum, Hofi og Sandfelli. Þar urðu sjóslys 1746 og 1758 og áhafnir drukknuðu. Sandburður frá jökulám og Skeiðarárhlaupum breytti lendingarskilyrðum svo að útróður lagðist smám saman af. Þó var enn róið frá Fagurhólsmýrar- og Hnappavallafjörum á 19. og 20. öld, menn leituðu ætíð að besta „hliði“, þ.e. öruggustu lendingunni hverju sinni.
Með aukinni vélbátaútgerð frá Höfn, bættum samgöngum og breyttum atvinnuháttum dró smám saman úr sjósókn frá útræðishöfnum sveitanna. Um 1974 var útgerð frá Skinneyjarhöfn nær alveg aflögð og þar með lauk löngum kafla í sögu árabátaútgerðar á Suðausturlandi. Á nokkrum þessara staða má enn finna jarðlægar minjar sem bera vitni um þá merkilegu sögu Austur-Skaftfellinga sem hér hefur verið vikið að. Sjón er sögu ríkari.
Aflanum skipt samkvæmt aflahlut
LIÐ FRÁ GRUNNSKÓLANUM Í ALÞJÓÐLEGRI LEGO-KEPPNI
Aðsend grein: Grunnskóli Hornafjarðar
Mikil eftirvænting ríkti þegar liðin Berserkir og Fortíðar kubbar héldu á dögunum til Grikklands til þátttöku í alþjóðlegri keppni í First Lego League (FLL). Töskur voru pakkaðar, spennan mikil og fram undan ævintýri sem margir höfðu beðið lengi eftir.
Eftir langt flug til Grikklands gisti hópurinn eina nótt í Aþenu áður en haldið var áfram með rútu til Korinthos, þar sem keppnin FLL Open International fór fram á svæðinu The Ranch. Þar komu saman lið frá 55 þjóðum og fengu þátttakendur einstakt tækifæri til að kynnast jafningjum alls staðar að úr heiminum.
Fljótlega varð ljóst að First Lego League snýst um meira en sjálfa keppnina. Samvinna, virðing og vinátta voru í forgrunni, auk þess sem lið skiptust á minjagripum og varningi frá heimalöndum sínum og kynntu verkefni sín í sýningarbásum.
Opnunarhátíð keppninnar þótti sérstaklega eftirminnileg. Þar voru liðin kynnt inn í salinn við hávær fagnaðarlæti, tónlist, ljósasýningu og mikla stemningu. Þátttakendur veifuðu þjóðfánum sínum og fögnuðu saman í fjölbreyttu og alþjóðlegu samfélagi ungs fólks. Sérstaklega þótti eftirminnilegt að sjá íslenska fánann meðal fjölmargra þjóða og upplifa samkenndina sem ríkti meðal keppenda.
Eftir tvo langa og viðburðaríka keppnisdaga lá niðurstaðan fyrir. Berserkir enduðu í 44. sæti af 56 liðum og Fortíðar kubbar í 36. sæti.
Að keppni lokinni hélt hópurinn aftur til Aþenu þar sem tími gafst til að njóta borgarinnar. Á dagskrá voru meðal annars heimsókn á McDonald’s og verslunarferð í miðborginni, auk þess sem margir fengu í fyrsta sinn að prófa neðanjarðarlest borgarinnar.
Þriðjudagurinn fór í afslöppun og skemmtun við Bolivar Beach Club þar sem þátttakendur nutu sólar, sjávar og góðs

félagsskapar. Hjólabátar og strandlífið slógu í gegn, þó sumir hafi þurft að fjárfesta í aftersun eftir sólríkan dag.
Á síðasta degi ferðarinnar heimsótti hópurinn Acropolis-hæðina í Aþenu og fékk fróðlega leiðsögn um bæði svæðið og sögu borgarinnar. Síðar sama dag var haldið á flugvöllinn og ferðinni heitið aftur heim til Íslands eftir viðburðaríka og eftirminnilega ferð.
Að lokum viljum við þakka öllum kærlega fyrir stuðninginn í vetur og gera ferðina að veruleika.
Jón Guðni, Sunna G og legókrakkarnir



Komdu í Hoffell
Kíktu við og njóttu í náttúrunni þinni.
Opið er frá 10–21 alla daga í sumar.
Verð er 4.500 fyrir fullorðna 12 ára og eldri og 900 krónur fyrir börn 2–11 ára.
Við tökum vel á móti þér!
HEIMAHÖFN KYNNT SEM FYRIRMYND Á SAMRÁÐSFUNDI Í
Aðsend grein: Nýheimar þekkingarsetur
Nýheimar
þekkingarsetur hefur undanfarin ár átt
í öflugu samstarfi
við Hälsinglands
Utbildningsförbund
í Svíþjóð og
Nordfjordkompaniet í Noregi.
Stofnanirnar þrjár standa sameiginlega að verkefninu Future in Focus: Empowering Youth in Rural Communities, sem styrkt er af Nordplus.
Liður í verkefninu var samráðsfundur sem haldinn var 19. maí í Söderhamn í Svíþjóð. Tilgangur fundarins var að skapa samtal um stöðu ungs fólks á landsbyggðinni og miðla reynslu af verkefnum sem miða að því að styrkja tengsl ungmenna við heimabyggð, atvinnulíf og samfélag. Fjölbreyttur hópur þátttakenda sótti fundinn, þar á meðal sveitarstjórnarfólk, fulltrúar félagasamtaka og fagfólk úr ýmsum greinum ungmennastarfs. Hugrún Harpa og Nejra tóku þátt fyrir hönd Nýheima þekkingarseturs.
Á fundinum kynntu Nýheimar þekkingarsetur og Nordfjordkompaniet verkefni sín og aðferðir á sviði byggðafestu ungs fólks. Nordfjordkompaniet greindi frá þeirri aðferðafræði sem þróuð hefur verið
SVÍÞJÓÐ

í Nordfjord í Noregi, en HeimaHöfn á sér fyrirmynd í því verkefni. Kynning Nýheima þekkingarseturs fjallaði um hvernig sú nálgun hefur verið aðlöguð að aðstæðum í Sveitarfélaginu Hornafirði og þróuð áfram í gegnum verkefnið HeimaHöfn.
HeimaHöfn er þróunarverkefni sem miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl Hornafjarðar með ungt fólk í forgrunni. Verkefnið byggir á samstarfi við ungt fólk, skóla, atvinnulíf, félagasamtök og aðra hagaðila á svæðinu.
Með því að styrkja tengsl ungmenna við heimabyggðina og auka sýnileika tækifæra er leitast við að efla byggðafestu og styðja ungt fólk til að taka upplýstar ákvarðanir

um framtíð sína.
Samráðsfundurinn í Söderhamn var ekki síst mikilvægur vettvangur til að kynna HeimaHöfn sem mögulega fyrirmynd fyrir önnur landsbyggðarsamfélög. Fulltrúar frá Íslandi og Noregi miðluðu reynslu sinni til sænskra þátttakenda með það að markmiði að sýna hvernig hægt er að þróa markviss verkefni sem tengja ungt fólk betur við samfélag sitt og framtíðarmöguleika í heimabyggð. Á fundinum kom fram áhugi á því að skoða hvernig sambærilegar aðferðir gætu nýst í sænsku samhengi. Rætt var hvernig sveitarfélög, menntastofnanir, atvinnulíf og félagasamtök geta unnið saman að því að skapa betri forsendur fyrir ungt fólk á landsbyggðinni.
Fundurinn var mikilvægur liður í alþjóðlegu samstarfi verkefnisins og gaf tækifæri til að miðla reynslu HeimaHafnar út fyrir landsteinana. Um leið styrkti hann samtal samstarfsaðila um hvernig hægt sé að þróa verkefni sem taka mið af aðstæðum hvers samfélags, en byggja á því sameiginlega markmiði að styðja ungt fólk til að sjá framtíðarmöguleika í landsbyggðarsamfélögum.
Nejra og Hugrún Harpa ásamt samstarfsfélögum

S u m a r o p n u n Á b ó k a s a f n i n u
1. júní - 31. ágúst
Mánudagar - Föstudagar
kl. 10:00 - 16:00
Lokað um helgar




GLEÐISTUND
frá kl. 15-20

GLEÐILEGA HUMARHÁTÍÐ!

Girnileg tilboð 26. og 27. júní:
Humarsúpu-cappuccino á aðeins
990 kr. í stað 1.900 kr.
Aperol spritz á aðeins 1.900 kr.
í stað 2.500 kr.
Við framlengjum gleðistundina!
Gleðileg tilboð á barnum frá kl. 15–20 þessa sömu daga.
verbudarbarinn
ÞÖKKUM GÓÐAN STUÐNING

Innilegar þakkir fyrir það traust sem þið sýnduð okkur, frambjóðendum Framsóknar og stuðningsmanna þeirra í sveitarstjórnarkosningunum hér í Sveitarfélaginu Hornafirði. Kærar þakkir til allra þeirra sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum í umræðu um framtíðina. Þessi mikli stuðningur hvetur okkur enn frekar áfram í vinnu að betra samfélagi. Við þökkum jafnframt öðrum framboðum
fyrir skemmtilega og málefnalega kosningabaráttu.
Áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir eru margvíslegar en tækifærin fjölmörg. Eftir samtöl við íbúa er ljóst að nokkur lykilmál standa upp úr hvar sem komið er í okkar víðfeðma sveitarfélagi.
Lækkun álagna, markviss uppbygging innviða, fyrirsjáanleiki til framtíðar, aðgengi að velferðarþjónustu óháð búsetu og enn
frekari efling skólastarfs eru dæmi um þetta.
Við lítum til framtíðar með bjartsýni að leiðarljósi. Við hlökkum til að halda áfram samtalinu og leita leiða til að bæta samfélagið.
Fyrir hönd frambjóðenda Framsóknar og stuðningsmanna þeirra þökkum við fyrir góðan stuðning og heitum því að hafa heiðarleika, samvinnu og hagsmuni íbúa að leiðarljósi í öllum okkar störfum. Við munum leggja okkur fram um að vinna af ábyrgð, hlusta á ólík sjónarmið og standa vörð um framfarir í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Aðal- og varamenn Framsóknar og stuðningsmanna í bæjarstjórn Hornafjarðar 2026-2030
Hjalti Þór Vignisson
Ingibjörg Sveinsdóttir
Björgvin Óskar Sigurjónsson
Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir
Gunnar Ásgeirsson
Finnur Smári Torfason


Innritun nýnema
skólaárið 2026-2027 stendur yfir
Síðasti umsóknardagur er föstudaginn 21. ágúst. Umsækjendur sækja um í gegnum hornafjordur.is/tonskoli
Þeir nemendur sem voru í námi á síðasta ári og skiluðu inn umsókn í vor, þurfa ekki að sækja aftur um.
Söngnámskeiðin verða auglýst í haust og þá er hægt að sækja þar um.
Nánari upplýsingar eru inn á heimasíðu skólans. hornafjordur.is /tonskoli Einnig má senda fyrirspurnir á tonskoli@hornafjordur.is
Skólastjóri
Aðsend grein: Framsókn og stuðningsmenn þeirra
SUMARIÐ ER KOMIÐ Í VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐI
Aðsend grein: Vatnajökulsþjóðgarður

Starfsmaður þjóðgarðsins með fræðslu fyrir ferðamenn
Um þessar mundir er nóg um að vera á suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs eins og venja er á þessum árstíma. Vetrarferðaþjónustan er búin þetta misserið og er sumartraffíkin tekin við.
Sumarstarfsfólk er að koma til starfa og mikil orka á svæðinu. Það eru alltaf jákvæð kaflaskil fyrir okkur hin sem störfum í þjóðgarðinum allt árið um kring að taka á móti og hitta nýtt sem og eldra starfsfólk sem ver sumrunum með okkur og náttúru þjóðgarðsins.
Landverðir í Skaftafelli halda til að mynda sérstaka fræðslugöngu í tilefni af degi villtra blóma þann 14. júní, öll eru velkomin - stór sem smá! Við hvetjum öll til þess að fara inn á vefsíðu þjóðgarðsins og kynna sér fræðsludagskrá sumarsins! www.vjp.is
Gestafjöldi í Skaftafelli yfir sumartíman
dæmi um það sem landverðir fást við á sumrin. Starfsmannafjöldi fer úr 14 í 30 í Skaftafelli en á Breiðamerkursandi helst starfsmannafjöldinn sá sam, eða 12 landverðir og yfirlandverðir. Þar að auki er 6 manna starfsstöð á Höfn.
Starfsfólk í Skaftafelli, á

BARNASTARF MENNINGARMIÐSTÖÐVARINNAR
Aðsend grein: Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Sem dæmi má nefna er að fyrsta ferð sumarsins verður farin þriðjudaginn 9. júní og þá brunum við út á Mýrar og heimsækjum Birgi í Flatey og fáum að skoða fjósið og kýrnar. Síðar í sumar munum við fara út í Hrossó í folf (frisbee golf), sigla með Lóðsinum út í Mikley, fara í fuglaskoðun í Óslandið með Bjössa Arnar og gönguferð og jóga með Huldu Laxdal, svo dæmi séu tekin.
Skráning fer fram á netfanginu afgreidslammh@hornafjordur.is og lýkur ávallt sólahring fyrir ferð eða kl.13:00 á mánudögum. Fyrir fyrstu ferð barns í sumar þarf forráðamaður að fylla út upplýst samþykki þar sem gefið er formlegt leyfi fyrir því að barnið taki þátt í Barnastarfinu.
Krakkarnir að skoða víkingaþorpið út á Horni
Í fjölda ára hefur Menningarmiðstöð Hornafjarðar boðið börnum í sveitarfélaginu að taka þátt í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar sem fram fer á sumrin. Árið í ár er engin undantekning og hefur Menningarmiðstöðin skipulagt ferðir og allskonar skemmtilegar uppákomur fyrir börnin í sumar.
Barnastarfið fer fram á þriðjudögum kl.13:00 og tekur alla jafna 2-2 ½ klst. Ávallt verður hist á bókasafninu í Nýheimum og
ferðirnar enda á sama stað.
Ferðirnar eru fyrir börn á grunnskólaaldri sem lokið hafa 1. bekk. Yngri börn eru velkomin með í ferðirnar en þá biðjum við foreldri eða forráðamann að fylgja barninu.
Í ár ferðumst við um víðan völl, bæði innanbæjar og utan og fáum til samstarfs við okkur fjölda fyrirtækja og einstaklinga sem öll stefna að því að gera sumarið ógleymanlegt fyrir börnin.

Eins og gefur að skilja þarf að fylgjast með veðurspá og börnin eiga að koma klædd eftir veðri því mikið er dvalið utandyra. Þá eru börnin beðin um að koma með nesti.
Síðast en ekki síst er vert að taka fram að frítt er í allar ferðir á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í sumar líkt og ávallt áður.
Við hlökkum til að skemmta okkur með ykkur í sumar



ATVINNA
Við leitum að einstaklingi í teymið okkar hjá kaffihúsinu Ljósdís
FRÁ OG MEÐ JÚNÍ
Um er að ræða starf í afgreiðslu og þjónustu
STARFIÐ FELUR MEÐAL ANNARS Í SÉR:
LAGA KAFFI OG BERA
FRAM DRYKKI
TAKA VIÐ PÖNTUNUM OG
AFGREIÐA Á KASSA
ÞRÍFA OG GANGA
FRÁ BORÐUM
AÐSTOÐA VIÐ UPPVASK OG
HALDA VINNUSVÆÐI HREINU
VEITA VINALEGA ÞJÓNUSTU

VIÐ LEITUM AÐ EINSTAKLINGI SEM ER:
Vinalegur og nýtur þess að vinna með fólki
Ábyrgur og áreiðanlegur
Getur unnið í hröðu starfsumhverfi
Jákvæður og vinnusamur
Reynsla sem kaffiþjónn er kostur
Upphaf starfs: Júní 2026
Staðsetning: Höfn í Hornafirði
HEFUR ÞÚ ÁHUGA? HAFÐU
SAMBAND Á NETFANGIÐ: LJOSDIS.EHF@GMAIL.COM EÐA Í SÍMA 789-7440
SUMARSTARF Á UMHVERFIS- OG FRAMKVÆMDASVIÐI
Viltu taka þátt í að móta stafræna framtíð Hornafjarðar?
Umhverfis- og framkvæmdasvið leitar að drífandi sumarstarfsmanni til að leiða verkefni við stafræna endurskipulagningu á gögnum sviðsins. Verkefnið er tilvalið fyrir nema eða einstaklinga sem vilja krefjandi starfsreynslu sem lítur vel út í ferilskránni.
Af hverju er þetta starf mikilvægt?
Sveitarfélagið stendur frammi fyrir mikilli stafrænni vegferð. Við erum að minnka geymslurými í ráðhúsinu og viljum tryggja að allar upplýsingar um lóðir og mannvirki séu aðgengilegar rafrænt. Þú verður lykilmanneskja í að bjarga mikilvægri sögu og tæknigögnum úr möppum yfir í nútímalegt tölvukerfi.
Hver ert þú?
Þú ert skipulögð manneskja og ferð vel með gögn.
Þú ert fljót(ur) að læra á ný tölvukerfi og tæki.
Þú býrð yfir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt að stórum verkefnum.
Þú hefur áhuga á að kynnast opinberri stjórnsýslu, arkitektúr eða verkfræðitengdum gögnum.
Verkefnin þín:

Þú ferð í gegnum lóðamöppur sveitarfélagsins og metur hvaða gögn vantar í stafræna gagnasafnið.
Þú skannar inn mikilvægar teikningar og samþykktir sem hafa mikið varðveislugildi.
Þú vistar gögnin í málakerfi sveitarfélagsins þannig að þau nýtist starfsmönnum og íbúum til framtíðar.
Um starfið:
Starfstími er allt að 3 mánuðir yfir sumarið.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vinnustaður er í skrifstofum sveitarfélagsins í fallegu umhverfi á Höfn.
Þetta er frábært tækifæri til að öðlast reynslu sem nýtist í námi og starfi, kynnast fagfólki á umhverfis- og framkvæmdasviði og hafa raunveruleg áhrif á vinnulag sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar:

Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, svarar öllum fyrirspurnum og tekur á móti umsóknum sendum á á tölvupóstfangið bartek@hornafjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní nk.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Vertu með í að byggja upp stafrænan Hornafjörð!



MORÁVEKPALLURINN SÍÐAN 2017
Morávekpallurinn
verður í ár haldinn í níunda sinn, en hann var fyrst haldinn
á Humarhátíð árið 2017. Síðan þá hefur pallurinn orðið að skemmtilegum hluta hátíðarinnar, þar sem tónlist, myndlist, matur og mannlíf mætast í afslappaðri stemningu.


Hugmyndin að baki Morávekpallinum er einföld, að koma saman, hlusta á tónlist og skemmta sér. Í ár stígur hljómsveitin Látún á pallinn. Látún er sex manna hljómsveit, skipuð fjórum blásurum, trommara og bassaleikara. Hljómsveitin leikur frumsamin lög og hefur tónlistinni verið lýst sem dansvænni gleðitónlist þar sem spilagleði og hrynþokki eru í fyrirrúmi.
Eins og áður verður myndlist einnig hluti af dagskránni. Listamaðurinn að þessu sinni er Birna Jódís Magnúsdóttir, sem verður með verk sín til sýnis á pallinum og til sölu. Þannig fær listin sitt rými samhliða tónlistinni og gestir geta notið fjölbreyttrar dagskrár í notalegu umhverfi.
Morávekpallurinn er haldinn í samstarfi við Humarhátíðarnefndina og með stuðningi fyrirtækja í samfélaginu. Þau fyrirtæki sem styrkja pallinn að þessu sinni eru Goðaborg ráðgjöf, Króm og Hvítt,
JÓNSMESSA
Kvöldguðsþjónusta í Hofskirkju á Jónsmessu 24. júní kl. 20.00

Sr. Kristján þjónar fyrir altari Hrafnkell sér um tónlist og Kirkjukór Hofskirkju leiðir söng. Verið öll hjartanlega velkomin.

Verbúðarbarinn, Eystrahorn, Pakkhús Restaurant, Horn Brugghús og Díma ehf. Enn er möguleiki að styrkja verkefnið og eru framlög frjáls.
Morávekpallurinn verður laugardaginn 27. júní kl. 18:00 og stendur til kl. 20:00. Boðið verður upp á matarsmakk, kjúklingasúpu frá Ghana og kjúklingavængi á grillinu.
Allt fyrir gamanið.



Fjöldi tónlistarfólks hefur komið fram á pallinum
Aðsend grein: Kristín G. Gestsdóttir
VILTU NÝTA ÞÉR NÁMS- EÐA STARFSAÐSTÖÐU Í NÝHEIMUM?
Aðsend grein: Nýheimar þekkingarsetur
Í Nýheimum geta námsmenn, einyrkjar, frumkvöðlar, rannsakendur og raunar allir sem vinna að hvers konar verkefnum fengið afnot af vinnu- og námsaðstöðu. Nýheimar þekkingarsetur veitir aðgang að aðstöðunni og er hún notendum að kostnaðarlausu.
Nemendabásar eru í opnu rými á austurgangi en einnig er aðstaða í skrifstofurými þar sem eru fjögur skrifborð með skjá, lyklaborði og mús. Notendur hafa einnig aðgang að sameiginlegri kaffistofu starfsfólks á vesturgangi og fundarherbergi eftir þörfum.
Markmið setursins með aðstöðunni er að veita sem flestum aðgang að rými til að vinna að sínum hugmyndum og verkefnum í skapandi og faglegu umhverfi. Nýheimar þekkingarsetur býður einnig upp á stuðning í formi ráðgjafar um styrki og aðra stuðningsmöguleika. Í

Nýheimum er öflugt þekkingarsamfélag og gefandi starfsumhverfi. Við hvetjum alla áhugasama til að hafa samband, fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda
Þriðjudagar kl 13 í júní og júlí
9 júní
16. júní
23 júní
30. júní
7 júlí
14. júlí
21 júlí
28. júlí
Skemmtileg sveitaferð í Flatey
Fuglaskoðun í Óslandinu með Bjössa Arnar
Listasmiðja fyrir Humarhátíð
Folf í Hrossó
Fjöruferð út á Horn
Gönguferð og barna yoga með Huldu Laxdal
Siglt út í Mikley
Loka - óvissuferð
Birt með fyrirvara um breytingar

tölvupóst á nyheimar@nyheimar.is eða kíkja til okkar.
Barnastarfsferðirnar eru ætlaðar börnum
á grunnskólaaldri sem lokið hafa 1 bekk
Yngri börn eru velkomin með í fylgd foreldra / forráðamanna
Við munum ferðast um víðan völl, bæði innanbæjar og utan og fáum til samstarfs við okkur fjölda fyrirtækja og einstaklinga sem öll stefna að því að gera sumarið ógleymanlegt fyrir börnin
Ávallt er lagt af stað frá bókasafninu í Nýheimum
kl 13 á þriðjudögum og ferðirnar enda á sama stað
Alla jafna taka ferðirnar 2-2 ½ klst
Börnin þurf að hafa nesti með sér og koma klædd eftir veðri
Fylla þarf út leyfisblað fyrir fyrstu ferð barnsins í sumar
Skráning fer fram á netfanginu afgreidslammh@hornafjordur is fyrir hádegi á mánudegi í viku hverri
Frítt er í allar ferðir

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ:
Uppvask og þrif í eldhúsi og kaffistofu starfsmanna
Matreiða í samvinnu við aðra matráða
Ganga frá þvotti
Sjá um að tæma rusl úr eldhúsi
Önnur tilfallandi störf tengd eldhúsi
HÆFNISKRÖFUR:
Stundvísi, frumkvæði og drifkraft í starfið
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla við að vinna í eldhúsi er kostur
Góð íslenskukunnátta
Leikskólinn Sjónarhóll er glæsilegur 8 deilda leikskóli með metnaðarfullu starfsfólki sem er til í að fá áhugasaman liðsauka Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur áherslu á útiveru og að kenna börnum færni í gegnum leik

Athygli er vakin á því að við ráðningu leikskólastarfsmanns er óskað eftir sakavottorði og að umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út

STYRKTARAÐILD
E n g i n l á g m a r k s u p p h æ ð
D Æ M I U M U P P H Æ Ð I R :
1.500 kr. á mánuði 2.500 kr. á mánuði 3.500 kr. á mánuði
Kíktu á eystrahorn.is og skráðu þig


Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar
Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags Áhugasamir af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2026
Umsóknum skal skila á netfangið mariannaj@hornafjordur.is. Með umsókn skal fylgja afrit af menntunargögnum ásamt ferilskrá og meðmælendum.
Frekari upplýsingar veita Maríanna í síma 470-8491 og Elínborg í síma 470-8492


BYGGJUM SAMAN STERKARA SAMFÉLAG Í HORNAFIRÐI


tengja fólk saman. Mörg okkar deila sömu áhugamálum, hvort sem það eru íþróttir, handverk eða annað, og slíkt getur verið frábær grunnur að nýjum vináttuböndum og góðu nágrannasamfélagi.
Til að halda áfram uppbyggilegum samskiptum við nýja íbúa hefur verið stofnaður sérstakur netvettvangur þar sem reglulega eru birtar upplýsingar um viðburði og mikilvæg málefni. Þar má einnig finna gagnvirkt kort af bænum með helstu þjónustustöðum og stofnunum ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum. Allir meðlimir hópsins geta þar spurt spurninga, leitað ráða eða deilt eigin reynslu af lífinu í Hornafirði.

Allir sem búa í Sveitarfélaginu Hornafirði þekkja vel þann sérstaka anda sem einkennir svæðið okkar. Á hverju ári koma hingað fjölmargir erlendir einstaklingar til tímabundinna starfa. Oft breytist dvöl sem átti aðeins að vara í nokkra mánuði í langvarandi dvöl og að lokum í fasta búsetu á Íslandi.
Fyrstu skrefin á nýjum stað geta þó oft verið erfið. Tungumálaörðugleikar, ókunnug samfélagsgerð og tilfinning um einangrun eru áskoranir sem margir nýir íbúar standa frammi fyrir. Við sem fyrir erum getum haft mikil áhrif á hvernig þessi byrjun verður og hjálpað fólki að finna sig velkomið og heima í samfélaginu okkar.
Það var einmitt út frá þessari þörf sem einstakt verkefni varð til, með það að markmiði að efla upplýsingamiðlun, gagnkvæman stuðning og samfélagslega aðlögun. Fyrstu opnu fundirnir og tengslanet á netinu hafa þegar skilað raunverulegum árangri og auðveldað nýjum íbúum daglegt líf í Hornafirði.
FIMM STOÐIR
STUÐNINGSINS
Verkefnið leggur áherslu á fimm lykilþætti sem skipta sköpum þegar fólk
hefur leik á nýjum stað:
• Grunnþjónusta: Hagnýtar upplýsingar um hvert hægt er að leita eftir aðstoð, hvernig opinber kerfi virka og hvernig nálgast má helstu þjónustu.
• Menning og félagslíf: Kynning á staðbundnum hefðum og aðstoð við að tengjast félagasamtökum, viðburðum og menningarlífi á svæðinu.
• Tungumál: Hvatning og stuðningur við fyrstu skrefin í íslenskunámi.
• Afþreying og virkni: Viðburðadagatal og aðstoð við að taka þátt í áhugahópum og tómstundastarfi.
• Höldum sambandi: Í gegnum hópinn okkar á netinu höldum við sambandi, miðlum nýjustu upplýsingum úr Sveitarfélaginu Hornafirði og svörum spurningum sem kunna að vakna.
GAMLABÚÐ, ÞAR
SEM SAGAN MÆTIR FRAMTÍÐINNI
Allir opnir fundir verkefnisins fara fram í Gömlubúð, elsta húsi Hafnar og mikilvægu tákni um upphaf byggðar í bænum. Val á þessum stað er táknrænt, hér geta nýir íbúar hafið sína eigin öruggu vegferð inn í samfélagið okkar.
Markmið fundanna er fyrst og fremst að
NÆSTI FUNDUR
Eftir frábærar undirtektir á fyrsta fundinum bjóða skipuleggjendur ykkur nú til næsta viðburðar verkefnisins. Fundurinn verður haldinn í notalegu umhverfi Gömlubúðar.
Auk mikilvægra upplýsinga og fróðleiks um svæðið mun sérstakur gestur taka þátt í fundinum: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs Starfsgreinafélags. Hún mun ræða um vinnumarkaðinn á Íslandi, réttindi starfsfólks og þann stuðning sem fylgir aðild að stéttarfélagi. Að loknu erindi verður opnað fyrir spurningar og umræður.
Upplýsingar um viðburðinn:
• Dagsetning: 18. júní
• Tími: 17:00
• Staður: Gamlabúð, Höfn
• Aðgangur: Ókeypis og öll eru velkomin!
KALLIÐ TIL
SAMFÉLAGSINS:
Ef þú þekkir einhvern sem er nýfluttur í Hornafjörð, eða hefur búið hér um tíma en á erfitt með að aðlagast samfélaginu, þá hvetjum við þig til að deila upplýsingum um fundinn og hjálpa okkur að dreifa orðinu.
Saman getum við stutt fólk í fyrstu skrefunum og byggt upp sterkt, opið og samheldið samfélag í Hornafirði.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Aðsend grein: Maciej Różański
Góð mæting hefur verið á fundina. Meðfylgjandi QR kóði vísar á facebook hópinn Velkomin í Hornafjörð
ÍSLENSKA EÐA ENSKA?
Aðsend grein: Eugénie Parent / Jenný
Ég heiti Eugénie, en ég er kölluð Jenný. Ég hef búið á Höfn í þrjú ár og er í fjarnámi í mannfræði á meistarastigi. Ég hef nýlega hlotið styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að vinna að rannsóknarverkefni á Höfn í sumar, undir leiðsögn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.

Við vitum öll að Sveitarfélagið Hornafjörður gengur í gegnum verulegar lýðfræðilegar breytingar sem tengjast ferðaþjónustu og vinnumarkaðstengdum fólksflutningum. Í þessu samhengi hefur vaxandi fjöldi erlendra íbúa haft áhrif á daglega málnotkun, sérstaklega með aukinni notkun ensku samhliða íslensku.
Íslenska hefur lengi verið talin einn af hornsteinum þjóðarvitundar. Hins vegar hefur aukin notkun og nærvera ensku, í samhengi sem mótast af ferðaþjónustu, orðið að verulegri áskorun á Íslandi og vakið áhyggjur af mögulegum menningarlegum yfirburðum hennar. Mikilvægt er að vekja athygli á þessum áhyggjum svo hægt sé að velta þeim fyrir sér saman.
Þegar ég kom fyrst til Íslands upplifði ég notkun ensku sem mjög jákvæða, þar sem hún auðveldaði mér samskipti og aðlögun. Með tímanum varð ég þó sífellt meðvitaðri um staðbundnar áhyggjur af vaxandi notkun ensku. Þessi breyting vakti áhuga minn á efninu og hvatti mig til að skilja það betur.
Markmið verkefnis míns er að öðlast betri skilning á því hvernig þessi tvö tungumál lifa saman og hvernig þessi staða getur haft áhrif á tilfinningu heimamanna (Íslendinga) fyrir því að tilheyra samfélaginu. Til þess mun ég safna og skrá frásagnir bæði frá íslenskum og erlendum íbúum, til að varpa ljósi á staðbundin viðhorf og upplifanir af þessum breytingum.
Ég mun taka opin viðtöl, bæði einstaklingsviðtöl og viðtöl á sérstökum upptökufundum í Gömlubúð. Markmiðið er að draga fram togstreitu, áskoranir og daglega reynslu fólks af tungumálanotkun.
Með þátttöku íbúa verður verkefnið beintengt Sveitarfélaginu Hornafirði. Það miðar að því að efla umræðu á staðnum, hjálpa til við að greina möguleg úrbótasvið, bæði hvað varðar verndun íslenskunnar



og aðlögun innflytjenda, og styðja við framtíðarverkefni.
Samantektarskýrsla verður lögð fram fyrir sveitarfélagið og haldin verður opin kynning á frásögnum, með umræðum í kjölfarið sem stuðla að sameiginlegri ígrundun. Verkefnið hefur einnig þýðingu á landsvísu, þar sem aukin nærvera ensku vekur spurningar víða um land í samhengi við vaxandi ferðaþjónustu og gæti því nýst öðrum sveitarfélögum.
Ég vil því bjóða íbúum hjartanlega velkomna að taka þátt í verkefninu með því að deila reynslu sinni og sjónarmiðum. Fyrsta tækifærið til þátttöku verður föstudaginn 19. júní og verður hægt að koma hvenær sem er milli klukkan 17:30 og 19:30 í Gömlubúð, þar sem ég mun taka upp frásagnir í notalegu og óformlegu umhverfi.
Allir eru velkomnir! Ef þú hefur áhuga en kemst ekki á þessum tíma, endilega hafðu samband svo við getum fundið annan tíma til þátttöku.
Er tu að vinna að einhverju ?
Viltu komast út úr húsi?
Náms- og starfsaðstaða í Nýheimum
Öll sem vinna að hverskonar verkefnum eða eru í námi geta fengið vinnu- eða námsaðstöðu í Nýheimum Í Kvískeri bjóðum við upp á skrifborð með skjá, lyklaborði og mús ásamt aðgengi að kaffistofu Einnig eru í boði nemendabásar
Aðstaðan er öllum notendum að kostnaðarlausu
Áhugasöm eru hvött til að kíkja við eða hafa samband á nyheimar@nyheimar is



FRAMSÓKN OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR MYNDA NÝJAN MEIRIHLUTA
Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Sveitarfélaginu Hornafirði hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026 til 2030. Markmið samstarfsins er að efla búsetuskilyrði, styrkja samfélagið og byggja áfram upp öfluga þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.
Samkvæmt samkomulaginu mun Hjalti Þór Vignisson taka við embætti bæjarstjóra, Gauti Árnason verður formaður bæjarráðs og Ingibjörg Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar.
Í málefnasamningnum kemur fram að áhersla verði lögð á hag fjölskyldna, lækkun álaga, uppbyggingu innviða og bætta þjónustu um allt sveitarfélagið. Þá verður lögð sérstök áhersla á jafnræði íbúa óháð búsetu og að mæta áframhaldandi fólksfjölgun með markvissri uppbyggingu bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Í samtali við Eystrahorn sagði Hjalti að það væri nóg framundan:
Ég hlakka mikið til næstu fjögurra ára og efst í mínum huga er þakklæti fyrir að vera treyst fyrir því verkefni að verma stól bæjarstjóra á komandi kjörtímabili. Framundan eru spennandi verkefni sem ég tel að geti styrkt samfélagið okkar og við munum leitast eftir breiðri sátt við önnur framboð um þau verkefni
Gauti segir samstarfið byggja á góðum grunni undanfarinna ára.
grunn- og framhaldsskóla ásamt bættri aðstöðu fyrir íþróttaog frístundastarf. Þá verður unnið að því að bæta aðgengi að þjónustu í velferðarmálum, efla lýðheilsu og tryggja sambærilega þjónustu fyrir íbúa í dreifbýli.
Flokkarnir leggja einnig áherslu á samþættingu umhverfis-, atvinnu- og menningarmála með það að markmiði að skapa skýrari framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið. Þá verður lögð áhersla á öflugt samstarf við ríkisvaldið um meðal annars samgöngur, heilbrigðisþjónustu og málefni tengd starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs.
Markmið nýs meirihluta er samkvæmt samkomulaginu að gera Sveitarfélagið Hornafjörð að enn betri stað til að búa á og eftirsóknarverðum valkosti fyrir fólk sem vill setjast þar að.
Málefnasamningurinn undirritaður.
Frá vinstri: Björgvin Óskar Sigurjónsson, Ingibjörg Sveinsdóttir, Hjalti Þór Vignisson, Gauti Árnason og Hjördís Edda Olgeirsdóttir.
Við erum spennt fyrir samstarfinu og ætlum áfram að byggja á því góða starfi sem átt hefur sér stað hér undanfarin kjörtímabil. Við ætlum að efla hag fjölskyldna, styrkja atvinnulífið og standa vörð um hagsmuni íbúa gagnvart hinu opinbera
Fræðslu- og frístundamál verða áfram í forgangi samkvæmt samkomulaginu, meðal annars áframhaldandi uppbygging leik-,


VIÐBURÐARDAGATAL HVAÐ ER UM AÐ VERA?
Fimmtudagur 4. júní
18:00 Tungumálakaffi í Gömlubúð, komdu í kaffispjall. Markmiðið er einfalt: tala, tengjast og prófa sig áfram
Föstudagur 5. júní
18:00 Minningarmót Gunnars Hersis Benediktssonar á Silfurnesvelli
20:00 Sigling báta ef veður leyfir
Laugardagur 6. júní
13:00 Prjónakaffi á Hótel Berjaya til 15:00
13:00 Dagskrá í tilefni sjómannadags við Hornafjarðarhöfn til kl. 15:00
14:00 Opið í FLÓ fatamarkaði Rauða krossins, við Sæbraut 5, til 16:00
15:30 Ekrubandið í Gömlubúð
Sunnudagur 7. júní - Sjómannadagur
13:30 Ekrubandið leikur létt og skemmtileg lög tengd sjómennsku í Hafnarkirkju fyrir Sjómannamessu í Hafnarkirkju
14:00 Sjómannamessa í Hafnarkirkju, hugvekja og blómsveigur lagður að minningarreit látinna sjómanna
15:00 Hátíðardagskrá í tilefni sjómannadags við íþróttahúsið
Mánudagur 8. júní
9:00 Vinnuskóli á vegum sveitarfélagsins hefst, umsóknarform á vef sveitarfélagsins
9:00 Sumarnámskeið barna hefjast, nánari upplýsingar og skráning á vef sveitarfélagsins
Þriðjudagur 9. júní
13:00 Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar, sveitaferð í Flatey
Miðvikudagur 10. júní
9:00 Meistaramót GHH á Silfurnesvelli
19:15 Sindri - Höttur á Jökulfellsvellinum
Fimmtudagur 11. júní
9:00 Meistaramót GHH á Silfurnesvelli
Föstudagur 12. júní
9:00 Meistaramót GHH á Silfurnesvelli
10:00 Æfingabúðir í borðtennis fyrir hreyfihamlaða í Hrollaugsstöðum á vegum UMF Vísis
Laugardagur 13. júní
9:00 Meistaramót GHH á Silfurnesvelli
10:00 Æfingabúðir í borðtennis fyrir hreyfihamlaða í Hrollaugsstöðum á vegum UMF Vísis
Sunnudagur 14. júní
10:00 Æfingabúðir í borðtennis fyrir hreyfihamlaða í Hrollaugsstöðum á vegum UMF Vísis
13:00 Fræðsluganga í Skaftafelli í tilefni dags villtra blóma Fjölskyldudagur GSÍ og KPMG á Silfurnesvelli
Mánudagur 15. júní
13:00 Útskrift Fjallaskóla Íslands í Hofgarði
Er viðburður framundan sem þú telur að eigi heima hér?
Hafðu samband eystrahorn@eystrahorn.is
Þriðjudagur 16. júní
13:00 Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar, fuglaskoðun með Bjössa Arnars
17:00 Hefðarmeyjamót GHH á Silfurnesvelli, Gatsby þema
Miðvikudagur 17. júní - Þjóðhátíðardagur Íslendinga
13:00 Hátíðarhöld UMFÖ í Svínafelli, gönguferð frá kl. 13:00 til 14:00, veitingar og leikir frá kl. 14:00
13:00 Hátíð UMF Vísis að Hrollaugsstöðum
13:00 Hátíðarhöld UMF Mána í Mánagarði, ganga, grill og leikir
13:30 Hátíðarhöld á vegum yngriflokkaráðs Sindra á miðsvæði Hafnar, leikir og sprell
Fimmtudagur 18. júní
16:30 Mótaröð Glacier Journey og GHH á Silfurnesvelli
17:00 Velkomin í Hornafjörð, nýbúahittingur í Gömlubúð um þjónustu og mannlíf í sveitarfélaginu
Föstudagur 19. júní
17:30 Komdu við í Gömlubúð og taktu þátt í stuttu viðtali um tungumálanotkun og inngildingu. Opið til kl. 19:30
Skilafrestur fyrir auglýsingar og efni í 6. tbl. Eystrahorns sem kemur út miðvikudaginn 24. júní.
Laugardagur 20. júní
16:00 Sindri - KV á Jökulfellsvellinum
Þriðjudagur 23. júní
13:00 Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar, Humarhátíðarlistasmiðja
17:30 “Breathing, wellness, peace of mind” með Gunnar Erni í Gömlubúð til kl. 18:30 (fer fram á ensku)
Miðvikudagur 24. júní
20:00 Guðsþjónusta í Hofskirkju 6. tbl. Eystrahorns kemur út í aðdraganda Humarhátíðar
FASTIR LIÐIR
Þriðjudaga
10:30 Krílakaffi á bókasafninu
13:00 Minigolf FeH við Ekru
15:00 Fablab opið til 17:00
16:00 Kvennagolf
Fimmtudaga
15:00 Fablab opið til 17:00
16:00 Opið í FLÓ fatamarkaði Rauða krossins við Sæbraut 5, til kl. 18:00
16:30 Opið í Hirðingjunum til 18:30
Laugardaga
10:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn, nánari upplýsingar á “Badminton Höfn” á Facebook
13:00 Opið í Hirðingjunum alla laugardaga til 15:00
Sunnudaga
11:00 Badminton fyrir 16 ára og eldri í íþróttahúsinu á Höfn, nánari upplýsingar á “Badminton Höfn” á Facebook
13:00 Samkoma í Hvítasunnukirkjunni á Höfn







Fimmtudagur 25. júní - Humarhátíð 2026
Humarhátíð, dagskrá auglýst í næsta blaði
Föstudagur 26. júní - Humarhátíð 2026
Humarhátíð, dagskrá auglýst í næsta blaði
15:00 Ólympíudagurinn á Vísisvelli á Hrollaugsstöðum
Laugardagur 27. júní - Humarhátíð 2026
Humarhátíð, dagskrá auglýst í næsta blaði
10:00 Vígslumót Vísisvallar á Hrollaugsstöðum
11:00 Öræfahlaupið, hefst frá Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli, skráning á www.netskraning.is
Sunnudagur 28. júní - Humarhátíð 2026
Humarhátíð, dagskrá auglýst í næsta blaði
8:00 Sjóvá - Humarhátíðarmótið á Silfurnesvelli
11:00 Guðsþjónusta í Bjarnaneskirkju
Þriðjudagur 30. júní
13:00 Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar, folf í Hrossó

17. júní í Nesjum
GÖNGUFERÐ, GRILL OG LEIKIR
UMF Máni heldur þjóðhátíðarskemmtun í Nesjum 17. jú ní. Mæting í árlega gönguferð klukkan 13:00 hjá Mánagar ði. Að gönguferð lokinni, um kl. 14:30, verða grillaðar pylsur hjá Mánagarði og farið í leiki. Hjólbörukapphlaup, naglaboðhlaup, pokaboðhlaup og stígvélakast.
17. JÚNÍ KL. 13:00
Ef veður leyfir verður sullað með vatn. Gott að taka með auka föt. Öll velkomin í fjörið!
























SKÚMEYJARLEIÐANGUR NÁTTÚRUSTOFU SUÐAUSTURLANDS
Aðsend
grein: Náttúrustofa Suðausturlands

Rannsóknarhópurinn í Skúmey. Frá vinstri Snorri Þórisson (sjálfboðaliði), Arnór Þórir Sigfússon (Verkís), Brynjúlfur Brynjólfsson (Náttúrustofa Suðausturlands og Fuglaathugunarstöð Suðausturlands), Sigurgeir Thoroddsen, Hrafnhildur Ævarsdóttir og Bjarki Ragnarsson frá Vatnajökulsþjóðgarði, María Rúnarsdóttir , Courtney Brooks og Hólmfríður Jakobsdóttir frá Náttúrustofu Suðausturlands.
Þann 21. maí síðastliðinn fóru starfsmenn Náttúrustofu
Suðausturlands í sína árlegu ferð út í Skúmey á Jökulsárlóni. Þrátt fyrir heiti eyjunnar verður helsingi að teljast einkennisfugl hennar enda er varp hans þar mun umfangsmeira heldur en skúmsins. Heiti eyjunnar stafar af því að þegar vísindamenn komu í hana í ágúst árið 2012 var þar einungis skúm að sjá en aðrir varpfuglar líklega horfnir á braut. Þótti viðeigandi að kenna eyjuna við einu sjáanlegu íbúana og hlaut hún heitið Skúmey. Á síðustu áratugum hefur skúmi á Íslandi fækkað um 80-90% og er fyrir vikið skráður í bráða hættu (CR) á válista Náttúrufræðistofnunar.
Markmiðið var að meta helsingjavarp í eyjunni. Þá þarf að ganga eyjuna fram og aftur og telja öll hreiður sem finnast. Skúmey,
sem er um 10 hektarar að stærð, kom undan Breiðamerkurjökli við lok 20. aldar. Hún er í dag þéttbýlasti varpstaður helsingja á Íslandi. Helsingjahreiður í Skúmey voru fyrst talin árið 2014 og voru þá 361. Frá 2017 hefur verið farið árlega í eyjuna og hreiður talin. Í ár fundust 1.829 hreiður sem er 3,3% aukning frá 1.770 hreiðrum árið áður. Þetta er þó ekki mesti fjöldi hreiðra sem vitað er af í eyjunni en árið 2022 fundust 2.006 hreiður. Líkt og árin áður ferjaði Jökulsárlón ehf. okkur á bátum sínum í eyjuna. Fyrirtækið og eigandi þess, Einar Björn Einarsson, hefur sýnt þessu vísindaverkefni ómetanlegan stuðning í gegnum tíðina og þökkum við kærlega fyrir veitta aðstoð.

Skúmar í varpi í Skúmey. Í ár fundust fimm skúmshreiður í eyjunni.

Jakobsdóttir telur helsingjahreiður.

María Rúnarsdóttir og Courtney Brooks telja helsingjahreiður.
Helsingjapar við hreiðrið sitt í Skúmey. Eftir að ungar klekjast úr eggi, nærri lokum maí fara helsingjarnir fljótt á aðrar slóðir þar sem er meira æti. Fuglarnir eru aðeins þrjár klukkustundir að synda austur yfir Jökulsárlón með ungana sína.

Hólmfríður
Myndir: Brynjúlfur Brynjólfsson.
MIKIÐ UM AÐ VERA Í TÓNSKÓLANUM
Aðsend grein: Björg Catherine Blöndal

Síðastliðið ár í Tónskóla AusturSkaftafellssýslu hefur verið litríkt og stútfullt af skemmtilegum tónleikum. Við fluttum starfsemi okkar aftur í endurbættan Sindrabæ og erum enn að klára að koma okkur fyrir. Eins og svo margir vita hefur biðin eftir hljóðkerfi verið löng og ströng, en við sjáum nú loks fyrir endann á því. Fjölmörg samspil og hljómsveitir hafa myndast, bæði innan og utan veggja Tónskólans. Ný lúðrasveit hefur hafið störf og samanstendur hún af nemendum í 3.-10.bekk sem og nokkrum kennurum Tónskólans sem tóku sig til og slógust í hópinn, þrátt fyrir litla sem enga kunnáttu á blásturshljóðfæri.
Söngkennsla hófst í september 2025 hjá okkur í Tónskólanum. Björg Blöndal sér um söngkennslu og hefur hún bæði verið með söngnámskeið fyrir nemendur grunnskólans sem og einkatíma fyrir fullorðna. Aðsókn í söng hefur farið fram úr öllum okkar væntingum og hefur söngkennslan fengið gríðarlega góðar undirtektir.
Söngkennslan í vor snerist að miklu leyti um undirbúning á stórum tónleikum sem haldnir voru í Sindrabæ þann 20. maí síðastliðinn. Fram komu 30 frábærir söngvarar á öllum aldri sem sungu lög eftir einn af okkar ástsælustu tónlistamönnum, Magnús Eiríksson. Hljómsveit kennara Tónskólans, sem nemendur í 3. bekk gáfu nafnið Klikkuðu Kóalabirnirnir, spilaði undir hjá söngnemendum á tónleikunum. Hljómsveitina skipa; Eymundur Ragnarsson á trommur, Hörður Alexander Eggertsson á hljómborð, Jóhann Morávek á rafbassa og Þorkell Ragnar Grétarsson á gítara. Hljóðmenn voru Emil Morávek og Pálmi Geir Sigurgeirsson, tónlistarstjóri tónleikanna var Björg Blöndal. Aðsóknin var mikil og fylltist Sindrabær af gestum sem mættu til að hlusta á yndislega tónlist Magga Eiríks. Á tónleikunum heyrðum við lög eins og Þorparinn, Draumaprinsinn, Komdu í partý, Ég er á leiðinni og svo endaði showið á öllum 30 söngnemendum saman

uppi á sviði að syngja Gleðibankann.
Við héldum samtals 4 söngtónleika í vetur í Sindrabæ og stefnan er að halda áfram á svipuðum nótum á næsta skólaári og hafa eina stóra tónleika á hvorri önn. Á skólaárinu 2026-2027 verður áfram boðið upp á söngnámskeið fyrir nemendur í 3.-10. bekk, en við ætlum einnig að bjóða nemendum í 7. bekk og upp úr að sækja einkatíma í söng. Þetta á ekki einungis við um börn á grunnskólaaldri, heldur fyrir alla þá sem hafa áhuga að sækja söngnám.
Í Tónskólanum er kennt á fjölda hljóðfæra; gítar, bassa, píanó/hljómborð, trommur, harmónikku, klarinett, þverflautu, trompet, saxófón, básúnu, horn og svo auðvitað söng.
Það er ekkert aldursþak í tónlist og hvetjum við alla sem hafa áhuga á tónlistarnámi (3. bekk og eldri) að sækja um hjá okkur í Tónskólanum, hvort sem þið eruð byrjendur eða lengra komin. Skólaslit fóru fram þriðjudaginn 26. maí. Litla samfélagið okkar í Tónskólanum er yndislegt og viljum við þakka öllum nemendum, aðstandendum og tónleikagestum fyrir frábært tónlistarár og hlökkum til komandi tíma!

Allir tóku þátt í Gleðibankanum
Nemendur sem luku prófi á sitt hljóðfæri
LIONSFÉLAGAR FÆRA SKJÓLGARÐI GJÖF
Aðsend grein: Matthildur Ásmundardóttir, verkefnastjóri Vigdísarholti
Hjúkrunarheimilið Skjólgarður á Höfn hefur
nýverið fengið veglega og gagnlega gjöf þegar
Lionsklúbbur Hornafjarðar afhenti heimilinu svokallaða Tidewave-dýnu.
Um er að ræða sérhæfða lækningadýnu sem hönnuð er til að bæta líðan og umönnun einstaklinga sem búa við alvarleg veikindi eða þurfa langvarandi legu.

Tidewave-dýnan er þróuð með það að markmiði að draga úr álagi á líkama sjúklinga og koma í veg fyrir legusár, sem er algengt og oft alvarlegt vandamál hjá einstaklingum sem eru rúmliggjandi. Dýnan virkar með því að dreifa þrýstingi jafnt um líkamann og styðja við náttúrulega líkamsstöðu, sem minnkar hættu á þrýstingsskemmdum á húð. Einnig er hún hönnuð til að bæta blóðflæði og auka þægindi notenda. Sérstaða Tidewavedýnunnar felst meðal annars í því að hún er búin hreyfanlegum stuðningskerfum sem aðlagast stöðu og þörfum hvers einstaklings. Þannig getur hún veitt bæði stuðning og létta, stöðuga hreyfingu
sem líkir eftir náttúrulegum hreyfingum líkamans. Þetta getur haft jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega líðan þeirra sem nota dýnuna.
Starfsfólk Skjólgarðs fagnar gjöfinni mjög og segir hana munu nýtast afar vel í daglegu starfi. Dýnan er sérstaklega mikilvæg í umönnun einstaklinga í líknarmeðferð, þar sem markmiðið er að auka vellíðan og draga úr óþægindum á síðustu stigum lífs. Einnig mun hún nýtast vel fyrir þá sem eru að glíma við legusár eða eru í áhættu á að þróa slík sár, auk einstaklinga með erfiða og langvinna sjúkdóma sem krefjast mikillar umönnunar.
„Þessi gjöf skiptir okkur miklu máli og mun hafa bein og jákvæð áhrif á lífsgæði íbúa okkar,“ segir Sigríður Axelsdóttir hjúkrunarstjóri á Skjólgarði.
Aðgangur að svona tæknibúnaði styrkir okkur í því mikilvæga hlutverki að veita eins góða og mannsæmandi umönnun og mögulegt er.
Lionsklúbbur Hornafjarðar hefur um árabil lagt sitt af mörkum til að styðja við samfélagið á ýmsan hátt og er þessi gjöf gott dæmi um það. Með framlaginu er félagið að styðja við mikilvægt heilbrigðisstarf á svæðinu og bæta aðstöðu fyrir viðkvæma hópa.
Íbúar, aðstandendur og starfsfólk Skjólgarðs eru Lionsklúbbi Hornafjarðar afar þakklát fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem mun án efa nýtast vel til framtíðar.

Valgeir Hjartarson, Gunnar Þorláksson, Hannes Ingi Jónsson, Sigríður Axelsdóttir, Matthildur Ásmundardóttir og Sverrir Þórhallsson


LEIKHÓPURINN LOTTA BIRNIR KRAKKAKVISS
FÆRIBANDIÐ
BREKKUSÖNGUR SÚPURÖLT SÖNGVAKEPPNI BARNANNA HORNFIRSK ATRIÐI


























SANDRA BARILLI ÍÞRÓTTAÁLFURINN
SINDRI Á LEIÐ Í ÚRVALSDEILDINA
Meistaraflokkur karla hjá Sindra í körfubolta skrifaði nýjan kafla í sögu félagsins í vor þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild karla í fyrsta sinn. Tímabilið var sterkt frá upphafi til enda og ljóst var snemma að Sindri ætlaði sér stóra hluti. Liðið endaði í öðru sæti 1. deildar og var lengi vel í baráttu um efsta sætið. Það munaði litlu að Sindri næði deildarmeistaratitlinum, en liðið tapaði gegn Hetti í úrslitaleik um 1. sætið á heimavelli fyrr í vetur.
Annað sætið dugði þó til að koma Sindra í umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Þar mætti liðið Breiðabliki í einvígi þar sem vinna þurfti þrjá leiki. Það þurfti alla fimm leikina til að knýja fram niðurstöðu og oddaleikurinn fór fram á heimavelli Sindra. Stemningin var mikil og leikurinn jafn og spennandi. Breiðablik var yfir í hálfleik, 44:37, en Sindramenn börðust til baka, minnkuðu muninn fyrir fjórða leikhluta og tryggðu sér að lokum 85:80 sigur á lokamínútunum.
Með sigrinum varð ljóst að Sindri mun leika meðal þeirra bestu á næsta tímabili. Fyrir körfuboltann á Höfn er þetta sögulegur árangur og stór stund fyrir leikmenn, þjálfara, stuðningsfólk og allt samfélagið.


Þjálfari Sindra, Nebo, er frá Serbíu, nánar tiltekið frá bænum Melenci þar sem hann ólst upp. Eiginkona hans, Nada, er einnig frá Serbíu, frá bænum Tabanovic. Saman eiga þau tvö börn, Petar sem er sjö ára og Miu sem er að verða fjögurra ára.

Nebo og Nada ásamt börnum sínum tveim. Þeim líkar vel hér á Höfn. Mynd úr einkasafni
Magnús Svansson tekur sniðskot í leik á móti Snæfelli. Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Meistaraflokkur eftir sigurinn á Breiðablik og stuðningsmenn troðfylltu stúkuna.
Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Eystrahorn hafði samband við Nebo og spurði hann nokkurra spurninga.
Nebo byrjaði að þjálfa yngri flokka á meðan hann var enn leikmaður hjá Vestra og segist fljótlega hafa séð fyrir sér að þjálfun gæti orðið hans framtíðarstarf.
Einn stærsti árangurinn á þeim tíma var að vinna Scania Cup með U16 liði Vestra, sem hann segir hafa verið sögulegan árangur fyrir félagið. Síðar þjálfaði hann yngri flokka í Borgarnesi á meðan hann lék með Skallagrími í tvö ár. Fyrsta meistaraflokkslið hans sem aðalþjálfara var ÍA á Akranesi, þar sem hann var einnig í tvö ár áður en leiðin lá til Sindra.
Aðspurður hvernig það sé að hafa náð þessum sögulega árangri með Sindra segir Nebo tilfinninguna vera einstaka.

Þetta er mjög sérstök tilfinning. Ég er mjög ánægður fyrir samfélagið og fólkið sem hefur beðið eftir þessu allt sitt líf. Ég er þakklátur og
stoltur af því að fá að vera hluti af þessu.
Hann segir karakter leikmannanna hafa gert liðið sérstakt á tímabilinu.
“Fyrst og fremst eru þetta góðir einstaklingar og síðan góðir körfuboltamenn. Við náðum að skapa fjölskylduumhverfi og góða stemningu, þannig að allir mættu ánægðir á hverja æfingu og í hvern leik. Menn spiluðu hver fyrir annan og fyrir liðið.”
Stuðningur fólksins í Hornafirði skipti liðið miklu máli, sérstaklega þegar mest reyndi á. Nebo segir að án stuðningsins hefði árangurinn ekki haft sömu merkingu.
„Stuðningurinn hjálpaði okkur á mikilvægustu augnablikunum. Ég vil nota tækifærið og segja stórt takk við alla sem studdu okkur. Fólkið skapaði bestu stemningu sem hægt er að hugsa sér á leikjum.“
Árangurinn hefur ekki aðeins þýðingu fyrir meistaraflokkinn, heldur einnig fyrir
unga körfuboltaiðkendur í Hornafirði. Á næsta tímabili fá þeir tækifæri til að sjá bestu leikmenn og lið landsins spila á Höfn. Nebo telur það geta haft mikil áhrif.
„Ég trúi því að þetta hvetji unga leikmenn til að æfa enn meira og verða eins góðir og þeir geta orðið í framtíðinni.“
Nebo segir fjölskylduna una sér vel á Höfn.
Við erum mjög ánægð hér og okkur líður eins og við séum orðin hluti af samfélaginu.
Næsta tímabil verður krefjandi fyrir félagið. Sindri fer nú upp á næsta stig og mætir sterkustu liðum landsins. Nebo segir stærstu áskorunina verða að aðlagast hraðanum, gæðunum og kröfunum í efstu deild.
„Við þurfum að búa til lið sem getur keppt við bestu og ríkustu liðin á landinu. Ég trúi því að við fáum stuðning frá öllum og að samfélagið verði eitt með okkur. Ég er viss um að við munum standa okkur vel.“
Sagan sem Sindri skrifaði í vor er því ekki aðeins saga um sigur í einum leik. Hún er saga um liðsheild, þrautseigju, stuðning og samfélag sem stóð saman þegar mest á reyndi.
stúkuna. Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Gísli Hallsson sækir að Breiðabliksmönnum. Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
ÁSTIN SEM EFTIR ER HLAUT SJÖ EDDUVERÐLAUN
Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir
Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut sjö Edduverðlaun á hátíðlegri verðlaunaafhendingu í Gullhömrum í Reykjavík á föstudagskvöld. Myndin var valin kvikmynd ársins og Hlynur Pálmason hlaut sjálfur þrenn verðlaun, fyrir handrit ársins, leikstjórn ársins og kvikmyndatöku ársins.
Aðspurður hvað viðurkenningin þýði fyrir hann persónulega segir Hlynur: „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir mig að þessar myndir sem við erum að gera verði sýnilegar í heiminum, svo fólk horfi á þær. Það er líka mikilvægt að myndinni gangi vel því það gefur henni aukinn vind í seglin til þess að fara í næsta verkefni saman og fjármagna þau.”
„Ég er ánægðastur með að við erum búin að
finna leið til að búa til persónulegar og stórar kvikmyndir hér á
Hornafirði. Að við getum fjármagnað verkefni og fengið fólk til að koma til okkar og vinna, að það sé möguleiki, er mjög magnað“ segir hann.
Fjölskyldan átti einnig stóra stund á verðlaunahátíðinni, því dóttir Hlyns og Hildar Ýrar, Ída Mekkín Hlynsdóttir, hlaut verðlaun sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í kvikmyndinni.
„Ég og Hildur vildum mest að Ída Mekkín myndi vinna af öllum þessum verðlaunum, svo við vorum kampakát þegar nafnið hennar var lesið upp. Þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld þar sem ég, Ída og Hildur dönsuðum langt fram á nótt, bara svaka stuð“ segir Hlynur.
Aðspurður hvað sé fram undan segir Hlynur að þau vinni nú að Á landi og sjó, stærsta verkefni þeirra fyrir austan til þessa, sem hann lýsir sem upprunasögu Hornafjarðar. Verkefnið fjallar um það

hvernig Hornafjörður varð til, með Ottó kaupmann hinum megin við fjallið í Papósi, sem pakkaði saman húsinu sínu, breytti því í fleka og fleytti því inn í Hornafjörð þar sem bærinn er núna. Tökur á verkefninu hafa staðið yfir í eitt ár og fram undan er annað ár í tökum. „Þetta er gríðarlega spennandi verkefni“ segir Hlynur.
Hann segir að ómögulegt væri að vinna verkefni af þessu tagi nema með hjálp fólksins í kringum þau og Hornfirðinga.
„Þeir eru gríðarlega margir sem hafa hjálpað og ég vil sérstaklega þakka Hornfirðingum og fólkinu í sveitunum í kring fyrir stuðninginn. Það er alltaf verið að hjálpa okkur á einhvern hátt, hvort sem það er að taka vel á móti leikurum og samstarfsfólki, leigja okkur hús, hjálpa okkur að smíða eitthvað, lána okkur aðstöðu eða leyfa okkur að taka upp á landinu hjá fólki. Við erum afar þakklát fyrir samstarfið“.
Ástin sem eftir er var sú kvikmynd sem hlaut flest verðlaun á Edduverðlaununum
að þessu sinni. Auk verðlauna Hlyns og Ídu hlutu Saga Garðarsdóttir og Sverrir Guðnason verðlaun fyrir aðalhlutverk sín í myndinni.
Það er óhætt að segja að kvöldið hafi verið stórt fyrir Hlyn, fjölskyldu hans og alla Hornfirðinga sem fylgst hafa með einstökum ferli hans frá fyrstu myndunum með vinunum á Hornafirði og yfir í stór kvikmyndaverkefni sem nú vekja athygli langt út fyrir landsteinana.

Hlynur Pálmason Mynd: CPH PIX
Mynd úr Ástin sem eftir er
Fyrir börn og unglinga í sumar
Mikilvægar upplýsingar:
Gæsla, frístund, námskeið, sumarstarf Þrykkjunnar og vinnskólinn hefjast 8. júní.
Gæsla fyrir 1.-4. bekk er kl. 8-9 í Kátakoti.
Frístund fyrir 1 -4 bekk er kl 13-16 í Kátakoti
Sumarnámskeið fyrir 1.-4. bekk eru kl. 9-12 á mismunandi stöðum.
Þrykkjan fyrir 5 -7 bekk er kl 10-12 og 13-15 í kofabyggð og skólagörðum.
Þrykkjan fyrir 8 -10 bekk er kl 19:30-22 á mánudags-, miðvikudags- og föstudagskvöldum. Vinnuskóli fyrir 7.-10. bekk hefst 8. júní við
Bárukot, fyrir utan Báruna.
Námskeiðs-, gæslu- og frístundartímabilin eru 8 júní- 3 júlí fyrir árg 2016-2019 og frá 10.- 21. ágúst fyrir árg. 2016-2020
Mismunandi námskeið eru í hverri viku eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Skrá þarf á hverja þjónustu viku í senn.
Allar skráningar eru á Sportabler undir
Umf. Sindri og Sveitarfélagið Hornafjörður. Takmarkað pláss- fyrstir panta fyrstir fá. Nánari upplýsingar hjá Ágústu Margréti verkefnastjóra fræðslu- og frístunda í síma 8631475 og agustam@hornafjördur is
Nafnasamkeppni
Í sumar verða skólagarðar og kofabyggð í boði fyrir börn á öllum aldri. Milli kl. 9-12 og 13-15 verða starfsmenn á svæðinu í tengslum við námskeið, sjá nánar á töflunni hér fyrir neðan. Skráning á Sportabler Utan þess tíma hvetjum við börn og foreldra til að nýta sér svæðið og byggja það upp í sameiningu. Svæðið er sameign Hornafirðinga og öllum opið á eigin ábyrgð. Við óskum eftir hugmyndum inn á www.hornafjordur.is af skemmtilegu nafni fyrir svæðið sem er á milli Krónunnar og skógræktarinnar.


AÐ LOKNUM KOSNINGUM
Aðsend grein: Gauti
Árnason
Þann 28. mai var undirritaður málefnasamningur milli Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Sveitarfélaginu Hornafirði. Við erum bjartsýn á þetta samstarf enda hafa þær umræður sem mótuðu þennan málefnasamning einkennst af trausti og heilindum samningsaðila, og er það staðföst trú okkar að það haldi áfram í samstarfi okkar þetta kjörtímabilið.
Sveitarfélagið stendur vel og við erum ákveðin í að halda áfram þeirri innviðauppbyggingu sem hefur verið síðustu árin. Einnig eru málefni fjölskyldunnar áfram í fyrirrúmi sem og ábyrgur rekstur sveitarfélagsins.
Við hlökkum til samstarfsins og vonumst til að sveitarfélagið haldi áfram að dafna, okkur öllum til hagsældar.
Við viljum nota tækifærið og þakka Kex

Einnig erum við að koma úr árangursríku og ánægjulegu samstarfi við bæjarstjórann okkar, Sigurjón Andrésson sem var ráðinn í júní 2022. Hann stígur nú úr stólum fjórum árum seinna, skilar góðu búi fyrir okkur öll og erum við Sjálfstæðismenn honum gríðarlega þakklátir fyrir hans góðu störf og samstarf við okkur öll.
Þá viljum við einnig koma á framfæri
móti okkur og þeim sem lögðu hönd á plóg í kosningabaráttunni. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með og taka þátt í bæjarmálunum á komandi kjörtímabili.
Nú höldum við inn í nýtt samstarf með Framsókn og stuðningsmönnum ásamt nýjum bæjarstjóra, Hjalta Þór Vignissyni, tilbúin að halda áfram góðu starfi fyrir samfélagið okkar, öllum til hagsbóta
F.h. bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna í

VINNUFERÐ Í KOLLUMÚLA
Um tvær helgar er að ræða, annað hvort 12. til 14. júní eða 19. til 21. júní. Endanleg dagsetning fer eftir veðri og færð.
Helstu verkefni eru þrif á skála, tengja vatn og gera klárt fyrir sumargestina okkar. Einnig verður boðið upp á einhverja moldarvinnu þar sem gera á nýjan pall við suðurhlið skálans, svo er girðingarvinna og ýmislegt fleira á verkefnalista.
Þeir sem áhuga hafa á að koma og spreyta sig á fjölbreyttum verkefnalista hafa samband við Möggu með SMS í síma 868-7624 eða einkaskilaboðum á Facebook við fyrsta tækifæri. Ferðin er kjörið tækifæri fyrir þá sem langar að berja Kollumúla augum og kynnast starfsemi félagsins.



Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur á facebook hóp félagsins: Ferðafélag Austur Skaftfellinga Hlökkum til að sjá ykkur og eyða helgi með ykkur á fjöllum.

AUGLÝSING
UM SKIPULAGSMÁL
Bæjarstjórn Hornafjarðar ákvað á 350. fundi sínum að auglýsa deiliskipulagstillögur skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Tillögur sem eru auglýstar til umsagna eru eftirfarandi:
Breyting á deiliskipulagi Moto-cross svæði á Höfn
Breytingin felur í sér stækkun á skipulagssvæði og skilgreiningu á nýjum sportgreinum innan skipulagssvæðis, enduro- og fjallahjólabraut. Samhliða breytingunni er landnotkun breytt úr landbúnaðarlandi í íþróttasvæði en sú vinna er hluti af endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir geta skilað þeim í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 596/2026.
Breyting á deiliskipulagi Skaftafell III og IV
Breytingin felur í sér að hámarkshæð bygginga verði lækkuð úr 6 m í 4 m. Hámarksflatarmál húsa verður áfram óbreytt eða um 64 m².
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir geta skilað þeim í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 602/2026.
Deiliskipulag jörðin Birgi í Suðursveit
Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu 3-4 stjörnu hótels. Skipulagssvæðið er sunnan við þjóðveg 1. Gert er ráð fyrir hótelbyggingu að stærð allt að 6.000 m² með um 216 gistirúmum. Hótelið verður reist úr forsmíðuðum einingum. Norðan við hótelbygginguna er gert ráð fyrir starfsmannaíbúðum á tveimur hæðum.
Samhliða deiliskipulagsgerð er landnotkun vegna áforma breytt úr landbúnaðarlandi í verslunar- og þjónustusvæði en sú vinna er hluti af endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir geta skilað þeim í gegnum skipulagsgáttina undir máli nr. 603/2026.
Athugasemdafrestur vegna deiliskipulagstillagna er frá og með 15. maí til 26. júní 2026 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina.
Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
SJÓFERÐIN
Höfundur: Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Ég hafði lagt leið mína í þorpið. Þar sem há og tignarleg fjöll höfðu verið á verði við langan og djúpan fjörðinn. Ég gekk rólega niður götuna, sem lá í gegnum þorpið. Gatan heitir ekkert nema gatan.
Húsin við götuna, reyndar öll húsin í þorpinu og sveitinni, heita eitthvað. Ég staldraði fyrir framan tvílyft hús. Mér fannst rétt sem snöggvast eins og einhver stæði bak við einn gluggann og horfði á mig. Ég þekkti hjónin sem þarna bjuggu. Ég sá fyrir mér manninn. Þrekvaxinn, í meðallagi hár og hárið tekið að þynnast. Hann var rólegur og fremur hlédrægur og sagði fátt. En ef hann sagði sína skoðun var hlustað á hann. Hann hafði verið trillukarl. Hann hét Jón og var alltaf kallaður Nonni. Hann þótti hrjúfur í framkomu og talsmáta. En traustur og raungóður.
Hann átti nokkrar kindur, sem hann hafði í fjárhúsi í útjaðri þorpsins. Hann hugsaði ákaflega vel um kindurnar. Hann gaf þeim nafn. Ein var í miklu uppáhaldi hjá honum, alltaf tvílembd. Hann hafði skírt þessa kind Trillu. Sennilega var það þess vegna sem gárungarnir í þorpinu kölluðu hann stundum trillubóndann. Sem ungur drengur hafði ég fengið að fara með Nonna í róður. Það var gola og örlítil undiralda. Fljótlega þegar komið var


á miðin fór ég að finna fyrir ógleði, sem hægt og sígandi fór versnandi. Ég varð fölur og leið illa. Sá gamli tók eftir hvernig mér leið.
Hann kallaði: „Gaptu upp í goluna, gæskur.“ Ég reyndi að gapa en það breytti engu. „Þú ert hvítur eins og gamall hundaskítur,“ sagði sá gamli og glotti.
Þá fann ég að togað var í færið. Ég hrökk við og byrjaði að draga. Ég þurfti að beita öllu mínu afli en ég hafði ekki krafta til að draga færið upp. Ég öskraði til Nonna: „Færið er fast í botni.“ Hann leit á mig en sagði ekki neitt. Festi hjólið í bremsu og kom til mín. Hann byrjaði að hala inn og viti menn, það var alls ekki fast.
„Hvern andskotann ertu að rugla, drengur?“ sagði hann. Hann hafði varla sleppt orðinu þegar rykkt var í færið af miklu afli. Sá gamli bölvaði hroðalega en gaf ekkert eftir. Ég horfði á hann og sá að hann var reiður en um leið einbeittur.
Heldurðu að ég hafi kannski sett í hval? sagði ég. Hann virti mig ekki viðlits. Hann barðist við færið drykklanga stund. Ég stóð og fylgdist með. Allt í einu sá ég eitthvert
ferlíki niðri í sjónum. Ósjálfrátt hrópaði ég upp: „Jú, þetta er sko hvalur.“
Nonni leit á mig með hæfilegri meðaumkun. „Mikill bölvaður þöngulhaus getur þú verið, vesalingurinn.“ „Komdu með gogginn.“ Ég spratt á fætur og hefði dottið útbyrðis ef Nonni hefði ekki gripið í öxlina á mér.
„Ég sagði þér að ná í gogginn en ekki að stökkva fyrir borð.“ Ég kom með gogginn. Hann þreif hann af mér og hjó honum í skepnuna, sem nú var komin upp á yfirborðið. Hann dró kvikindið alveg að borðstokknum. „Helvíti er hún stór,“ sagði hann. Ég sá að þetta var feiknastór lúða. Það tók okkur, eða réttara sagt Nonna, talsverðan tíma og mikið erfiði og ósköpin öll af blótsyrðum og skömmum að koma lúðunni um borð. Þegar hann hafði blóðgað lúðuna settist hann klofvega á þóftuna og þurrkaði af sér svitann.
Þú leynir á þér, gæskur. Náðu í nestið fyrir mig.
Ég klöngraðist aftur í stýrishús eftir nestinu. Hann fékk sér kaffi og dæsti. Allt í einu var farið að vinda. Vindhviður komu ofan af bjarginu. Báturinn var farinn að rugga ískyggilega. Nú fann ég aftur fyrir ógleði sem hafði vikið fyrir spenningi meðan við glímdum við lúðuna.
Mynd af trillu af svipaðri stærð og Guðmundur talar um, Kiðubjörg Borgarfirði eystra bera yfir hana. Mynd Sverrir Að.
Guðmundur Ingi
Ég byrjaði að kasta upp. Nonni glotti og sagði það gott hjá mér að gefa hnísunni að éta. Ég var ekki viss hvað hann meinti með því. „Er ekki best fyrir okkur að fara að halda heimleiðis?“ spurði ég. Hann svaraði engu en byrjaði að veiða. Þá gerði ég það líka. Átti nú í talsverðu basli með að halda jafnvægi vegna öldugangs, sem mér fannst fara ört vaxandi.
En sennilega var þetta bara smá kaldaskítur, eins og Nonni orðaði það. Tíminn leið óskaplega hægt og ég búinn að æla lifur og lungum. Það var gott fiskirí þessa stundina. Það sló á sjóveikina að draga stóra þorska.
Mér leið illa. Kúgaðist og rak upp smá hljóð. Mér fannst veðrið versna og öldurnar stækka. Ég var skíthræddur en reyndi að láta á engu bera. Loksins þegar líða tók að kvöldi sagði Nonni að nú væri mál að sigla heim á leið. Ég gekk frá rúllunni og lagðist fram í skut. Mér varð fljótlega kalt og fór að skjálfa. Það var
eins og ekkert færi fram hjá Nonna. Hann kallaði og sagði mér að koma og leyfði mér að sitja inni í stýrishúsinu. Þar var hlýtt og fljótlega fór ég að hressast.
Við lögðum að við kranann og byrjuðum að landa. Lúðan var hífð í land. Það vakti nokkra athygli. Menn komu og virtu ferlíkið fyrir sér og einn spurði Nonna hvar hann hefði sett í hana.
Nonni nefndi miðin þar sem lúðan tók, en sagði um leið að það hefði verið strákurinn sem setti í hana.
Ég heyrði að karlarnir töluðu um að sá sem setti í stóra lúðu byggi yfir sérstökum hæfileika. Hann yrði að vera graður. En ég skildi ekki alveg í hverju sá hæfileiki væri

fólginn. Ætlaði að spyrja um það þegar heim kæmi. Þegar ég kom heim sagði ég miklar hetjusögur af mér þegar ég glímdi við lúðuna. Ég gætti þess að nefna ekki sjóveikina eða að ég hefði orðið svolítið hræddur. Ég spurði móður mína hvers vegna sá sem setti í stóra lúðu yrði að vera graður. Móðir mín, sem var mjög siðavönd og ströng hvað orðbragð varðaði, sagði að þetta væri nú bara rausið í honum Nonna. Ég komst síðar meir að því hvað átt var við.





Sunnudaginn 7. júní kl. 14:00
Ekrubandið leikur létt og skemmtileg lög tengd sjómennsku kl 13:30
Hannes Ingi Jónsson fly tur hugvekju
Samkór Hornafjarðar syngur
Sr. Gunnar Stígur þjónar f yrir altari
Blómsveigur lagður í minningarreit hor finna sjómanna í lok messu.
Verið velkomin


NÝR ÁSGRÍMUR KOMINN HEIM
Sunnudaginn 10. maí var merkisdagur hjá Skinney-Þinganesi þegar nýr Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom til heimahafnar. Óhætt er að segja að heimkoma skipsins hafi vakið mikla athygli meðal bæjarbúa og sjómanna. Fjölmargir lögðu leið sína niður á bryggju þegar skipið kom til hafnar.

Í tilefni heimkomunnar bauð SkinneyÞinganes í opið hús þar sem fólki gafst kostur á að skoða nýja uppsjávarskipið, kynna sér aðstöðuna um borð og fagna þessum stóra áfanga með áhöfn og starfsfólki. Ásgrímur Halldórsson SF-250 er systurskip Hákons ÞH. Skipið var smíðað hjá Karstensens skipasmíðastöðinni í Danmörku og er búið fjölbreyttum og öflugum tæknibúnaði til uppsjávarveiða.
Um borð er fullkomin tækni og öflugur búnaður, meðal annars aðalvél frá Wärtsilä, fiskleitartæki frá Simrad, siglinga- og fjarskiptabúnaður frá JRC, hliðarskrúfur frá Brunvoll, stýri og stýrisvél frá Kongsberg, afl- og staðsetningarkerfi frá Marport og björgunarbúnaður frá Víking.
Heimkoma Ásgríms Halldórssonar SF-250 markar mikil tímamót fyrir SkinneyÞinganes og sjávarútveginn á Hornafirði. Skipið mun gegna mikilvægu hlutverki í uppsjávarveiðum félagsins næstu ár og var vel við hæfi að bæjarbúum gæfist tækifæri til að koma um borð, skoða skipið og fagna þessum áfanga.
Við hönnun þess var meðal annars tekið mið af aðstæðum hér heima, ekki síst innsiglingunni um Hornafjarðarós. Nýja skipið er með minni djúpristu en eldra skip með sama nafni, sem auðveldar siglingar um ósinn.

Ásgrímur Halldórsson SF-250 við bryggju. Mynd: Sigurjón Andrésson
Ásgrímur Halldórsson SF-250 er hið glæsilegasta skip. Mynd: Skinney-Þinganes
MINNISVARÐI Í ÓSLANDI
Þann 28. október
árið 1991 varð hörmulegt slys við Hornarfjarðarós þegar skólabáturinn

Mímir RE 3 fórst, sjö manna áhöfn var um borð, fimm drengir ásamt skipstjóra og stýrimanni.
Drengirnir fimm komust lífs af en Þórður Örn Karlsson skipstjóri og Bjarni Jóhannsson vélstjóri létust, þeir voru báðir frá Suðurnesjum. Bjarni fannst skömmu eftir slysið en mikil leit var gerð að Þórði sem á þessum tíma var nýkjörinn forseti Kiwanisklúbbsins Keilis. Félagar frá Kiwanisklúbbnum ásamt félögum úr björgunarsveitinni Stakk fjölmenntu austur til að aðstoða við leit, tveimur vikum síðar fannst Þórður.
Í september verður næsta umdæmisþing Kiwanisumdæmisins Ísland - Færeyjar haldið á Höfn í Hornafirði og eru

ákveðið að gefa Sveitarfélaginu Hornafirði forláta bekk úr granít sem minnisvarða um þá Suðurnesjamenn sem fórust.
Bekkurinn er kominn á sinn stað í Óslandi og verður vígður seinnipart
Kiwanisklúbburinn Keilir vill þakka bæjaryfirvöldum á Hornafirði fyrir að taka vel í hugmyndina og lipra þjónustu.
Fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Keilis Jóhannes Sigvaldason forset.

Bekkurinn er kominn í Óslandið
LÍFIÐ Á SJÓ
Í tilefni sjómannadagsins hafði Eystrahorn samband við Sidda Árna,
Elvar og Sævar og fékk þá til að svara nokkrum léttum spurningum um sjómennskuna, félagsskapinn, fjarveru frá fjölskyldunni, eftirminnileg atvik og hvort kaffi eða orkudrykkur verði fyrir valinu á sjó.
SIDDI ÁRNA
Á hvaða bát ert þú?
Ég er á Skinney SF-20 sem gerð er út frá Höfn.
Hversu lengi hefur þú verið á sjó?
Um það bil 30 ár, sautján af þeim sem kokkur á Skinney.
Hvað finnst þér skemmtilegast við sjómennskuna?
Sjómennskan hefur upp á ýmislegt að bjóða, til dæmis góðan félagsskap, góð frí og yfirleitt gott kaup.
Hvað er erfiðast við starfið?
Fjarvera frá fjölskyldunni er líklega það erfiðasta.
Áttu einhverja sérstaklega eftirminnilega sjóferð eða atvik?
Já, á mínum fyrstu árum sem sjómaður var ég á bát með afa mínum ásamt öðrum og vorum við á lúðulínu á Reykjaneshrygg í brjáluðu veðri. Talstöðin var biluð um borð og ekki var hægt að hafa samband í land.
Á þessum tíma var pabbi minn að vinna hjá Tilkynningarskyldunni svokölluðu, sem sá um eftirlit með skipum og bátum við landið, og hann þurfti sem sagt að stjórna leit að pabba sínum og syni eina nótt og fram á næsta dag, þegar við komum fram.
Þessi saga er í einni Útkallsbókinni eftir Óttar Sveinsson. Sennilega reyndi þessi nótt mikið meira á pabba heldur en okkur. Ég hélt allavega að allt væri bara eðlilegt þangað til ég heyrði í flugvél Landhelgisgæslunnar sveima yfir okkur þegar við vorum að verða komnir í land.
Hvað finnst þér best við að koma í land aftur?
Að hitta fjölskyldu og vini. Oft er maður líka búinn að plana eitthvað sem stendur til allan tímann sem maður er á sjó.
Kaffi eða orkudrykkur á sjó?
Kaffi hjá mér. Ég hef aldrei komist upp á lag með orkudrykki.


ELVAR UNNSTEINSSON
Á hvaða bát ert þú?
Erni SF-70.
Hversu lengi hefur þú verið á sjó?
Ég var fyrst skráður 1979, þannig að það styttist í hálfa öld.
Hvað finnst þér best við sjómennskuna?
Góður félagsskapur, líka þegar ég er einn á bátnum.
Hvað er erfiðast við starfið?
Það gat verið krefjandi að ferðast í mikilli þoku. Það hefur lagast mikið með betri græjum.
Hver er besti maturinn á sjó?
Í minningunni var alltaf stemmari að halda humarveislu á humarbát.
Hvað gerir þú fyrst þegar þú kemur í land?
Fer í sund.
Hvernig heldur áhöfnin uppi stemningunni?
Verandi aleinn á bátnum, þá er það helst að spjalla við múkkana. Orkudrykkir eða kaffi?
Kaffi.

SÆVAR KNÚTUR HANNESSON
Hvaða bát ert þú?
Ég er á Ásgrími Halldórssyni og svo á ég smábátinn Sigurbjörgu með pabba. Hversu lengi hefur þú verið á sjó?
Ég hef verið fastráðinn síðan 2017 en var í sumarafleysingum frá 2011 fram að því.
Hvað finnst þér skemmtilegast við sjómennskuna?
Það er fjölbreytnin og svo vinnufélagarnir sem hafa mikið að segja. Hvað er erfiðast við starfið?
Það er fjarveran frá fjölskyldunni. Áttu einhverja sérstaklega eftirminnilega sjóferð eða atvik?
Já, það eru nokkrar eftirminnilegar ferðir, til dæmis þegar ég kíkti aðeins upp á sker hjá Djúpavogi á trillunni. Einnig hef ég tekið smá sundsprett á henni og margt fleira.
Það var líka nokkuð eftirminnilegt þegar við slitum allt aftan úr á Ásgrími fyrir tveimur árum og þurftum að slæða það upp ásamt hlerunum. Allt hafðist það og gekk vel.
Hvað finnst þér best við að koma í land aftur?
Það er klárlega að koma heim til sín. Kaffi eða orkudrykkur á sjó?
Kaffi og þá sérstaklega í brúsa. Finnst þetta baunadót ekkert spes, en maður fær sér einn og einn orkudrykk inn á milli.
Siddi Árna
Sævar Knútur Hannesson
Elvar Unnsteinsson
BYRJAÐI Á SJÓ AÐEINS
15 ÁRA GÖMUL
Greinarhöfundur: Vaka Sif Tjörvadóttir
Í tilefni Sjómannadagsins spjallaði ég við Ágústu Margréti Arnardóttur sem starfaði á sjó í tólf ár.
Hún byrjaði óvenju ung, aðeins 15 ára gömul, og vann á ýmsum tegundum fiskiskipa. Á þessum árum safnaði hún fjölbreyttri reynslu og upplifði bæði ævintýri og áskoranir sem hafa mótað hana sem manneskju.
Ágústa var að vinna við humarvinnslu sumarið 1994 eins og venjan var á þessum árum. Komandi af miklum sjómönnum vissi hún að launin væru mun betri úti á sjó en inni í fiskvinnslu og einn daginn ákváðu hún og Dísa vinkona hennar að spyrja hvort þær mættu fara með í veiðiferð sem gestir. Það gekk hraðar fyrir sig en þær bjuggust við og skömmu síðar voru þær komnar á humarveiðar.
„Við löbbuðum yfir á Silfurnesið og spurðum
hvort við mættum fara með sem gestir. Daginn
eftir vorum við komnar út á sjó“ sagði Ágústa.
Eftir fyrstu ferðina fékk hún að halda áfram og síðar fór hún á frystitogarann
Andey. Þar fór hún í margra vikna túra og sigldi meðal annars alla leið í Smuguna. Á þessum tíma var hún enn í grunnskóla og vann því aðeins á sjó yfir sumarið. Eftir grunnskólann ákvað hún hins vegar að halda áfram og vann síðan á sjó bæði sumar og vetur. Á starfsferli sínum var hún á humarveiðum, frystitogurum, línubátum, netabátum og trillum.
Spurð út í hvað hafi heillað hana mest við sjómennskuna segir hún að starfið hafi einfaldlega hentað sér mjög vel. Henni fannst gott að vinna mikið þegar veiðin var í gangi og fá svo hvíld á milli.
„Mér leið vel úti á sjó. Mér fannst bara ótrúlega gott að vera úti á sjó, vinna hratt og mikið þegar við vorum að vinna og svo var ég bara í fríi í landi.“
Á þeim tíma voru hvorki farsímar né samfélagsmiðlar til staðar. Samskipti við fjölskyldu og vini voru því mjög takmörkuð. Á skipinu var aðeins einn tíkallasími sem hægt var að nota þegar samband náðist.

Stundum liðu margar vikur án þess að hún heyrði í fjölskyldunni sinni.
Þótt konur væru færri en karlar í sjómennsku voru þær þó nokkrar á þeim skipum sem Ágústa vann á. Hún segir hins vegar að konur hafi oft þurft að leggja meira á sig til að sanna getu sína.
„Við þurftum alltaf að reyna að vera eins góðar eða betri og besti karlmaðurinn“ sagði hún.
Hún fékk einnig ýmis viðbrögð frá fólki þegar hún hóf störf á sjó. Margir töldu starfið óvenjulegt fyrir unga konu og enn í dag vekur það athygli þegar hún segir frá þessum hluta lífs síns.
Á árunum á sjó upplifði Ágústa margt eftirminnilegt. Hún lenti í erfiðum veðrum, sigldi langar leiðir og þurfti oft að takast á við óvæntar aðstæður. Minnisstætt er til dæmis þegar frystitogari sem hún var um borð var tekinn af norsku strandgæslunni og þegar Steypireyður sem var stærri en báturinn sjálfur flæktist í netunum. Áhöfnin þurfti að hjálpa dýrinu að losa sig og Ágústa man enn vel eftir því hversu stórt augað á því var í svona mikilli nálægð. Þrátt fyrir að 20 ár séu liðin síðan Ágústa hætti á sjó hefur reynslan fylgt henni. Hún segir að árin tólf til sjós hafi kennt sér margt sem nýtist henni enn og átt stóran þátt í að móta hana að þeirri

manneskju sem hún er í dag.
„Lengst út á hafi verða allir bara að tækla það sem kemur upp á þegar það kemur upp á og það er margt til dæmis veður, of lítil eða of mikil veiði, ofsabrælur, bilanir og fleira. Og svona er lífið, það er


allt fullt af einhverjum óvæntum uppákomum sem maður ræður ekki yfir. Það þýðir ekkert að urlast yfir því, bara halda áfram.“

Ágústa ung að árum á bryggjunni. Myndir úr einkasafni
Mynd og grein á fyrri síðu birtust í Morgunblaðinu þann 19. ágúst 1994. Hér má sjá Ágústu ásamt tveimur systkinum og pabba. Frá vinstri: Hildur, Ágústa, Öddi og Stefán
