Eystrahorn Fimmtudagur 15. nóvember 2012
40. tbl. 30. árgangur
www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is
Jólamarkaður
Undanfarin ár hafa Hornfirðingar safnast saman fyrsta laugardag á aðventunni, slegið upp markaði og notið jólastemningar. Jólamarkaðurinn er orðinn ómissandi hluti jólaundirbúningsins og skemmtilegt krydd í tilveruna. Jólamarkaðurinn verður með breyttu sniði í ár. Síðustu ár hefur markaðurinn verið í Nýheimum og Miðbæ en
í ár verður markaðinn haldinn í söluhjöllum á torginu milli Ráðhússins og Nýheima. Markaðurinn verður opinn dagana 1., 8., 15., og 22. desember klukkan 13:00 - 16:00. Þeir sem vilja fá aðstöðu á markaðnum eru beðnir um að senda upplýsingar um þá daga sem sótt er um, upplýsingar um söluvarning, nafn og kennitölu á netfangið jolamarkadur@
Árna Rúnar í 2. – 4. sæti
Rafrænt flokksval Samfylkingarinnar fer fram 16. og 17. nóvember. Kosning hefst föstudaginn 16. nóvember og lýkur kl. 18:00 laugardaginn 17. nóvember. Kosningin fer fram á netinu á heimasíðu Samfylkingarinnar www.samfylking.is en þar einnig að finna leiðbeiningar um þátttöku í flokksvalinu. Kjörstaður verður einnig opinn í húsi Afls við Víkurbraut frá 13 – 17 báða dagana fyrir þá kjósendur sem ekki hafa aðgang að nettengdri tölvu eða heimabanka.
Takið þátt – hafið áhrif Tryggjum Árna Rúnari góða kosningu á lista Samfylkingarinnar fyrir nk. alþingiskosningar.
Stuðningsmenn
hornafjordur.is. Þá eru hönnuðir, veitingastaðir og verslanir hvött til að vera með og dreifa þannig jólamarkaði útum alla Höfn. Tilkynna þarf um þátttöku og umsókn um aðstöðu í söluhjöllum fyrir 22. nóvember á ofangreint netfang. Nánari upplýsingar má finna á www.hornafjordur.is
Draumasveitarfélagið Hornafjörður í fjórða sæti
Í nýjasta tölublaði Vísbendingar kemur fram að sveitarfélagið Hornafjörður stendur fjárhagslega mjög vel miðað við önnur sveitarfélög á landinu og er valið í fjórða sæti sem draumasveitarfélag. Tímaritið gaf sveitarfélögum á landinu einkunn þar sem gerður er samanburður hvernig þau eru stödd fjárhagslega. Þar eru fimm þættir skoðaðir ; breytingar á fjölda íbúa, afkoma sem hlutfall af tekjum, skattheimta, hlutfall skulda af tekjum og veltufjárhlutfall. Hornafjörður kemur mjög vel út í samanburði við önnur sveitarfélög. Þegar gerður er samanburður á landsvísu þá er skuldastaðan á Hornafirði ásættanleg, þegar reiknaðar eru skuldir sem hlutfall af tekjum. Árið 2011 eru skuldir 52% sem hlutfall af tekjum en sem dæmi þá eru skuldir hlutfall af tekjum í Reykjavík 263%, Fjarðarbyggð 208% og Garðabæ 67%. Fólksfjöldi á landinu öllu var 0.5% en á Hornafirði jókst íbúatalan um 1% sem er helmingi meiri en meðaltal á landsvísu. Talið er að íbúafjölgun gefi vísbendingu um að betri skilyrði eru í viðkomandi sveitarfélögum og ef íbúafækkun á sér stað eru skilyrði ekki eins og best verður á kosið. Veltufjárhlutfallið er 1,35 sem gefur vísbendingu um að sveitarfélagið hafi nokkuð góða lausafjárstöðu, en miðað við að draumasveitarfélagið hafi veltufjárhlutfall nálægt 1.0, þá er afkoma sem hlutfall af tekjum 7.9% en á að vera sem næst 10%.