Skip to main content

Eystrahorn 40. tbl. 2011

Page 1

Eystrahorn

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Fimmtudagur 10. nóvember 2011

40. tbl. 29. árgangur

Björn lóðs gerði gæfumuninn Ölmu og tókst það vel við slæmar aðstæður. Ef Hoffellið hefði ekki komið þá hefðum við haldið áfram björgunaraðgerðum en Hoffellið er stærra og öflugra skip sem hentaði betur til verksins. Í fjölmiðlum var nokkuð gert úr tungumálaörðugleikum en okkur tókst ágætlega að hafa samskipti við skipstjórann, sem var reyndar óðamála til að byrja með, en það lagaðist fljótlega og reyndar þekkjum við hann orðið. Það skapast alltaf hætta við svona aðstæður. Við gerðum okkur alveg grein fyrir því og vorum að sjálfsögðu stressaðir, annað er óeðlilegt, sérstaklega vegna þess að lúgan var farin og það komst sjór í skipið. En dælurnar höfðu vel undan.

Hafnsögumennirnir Vignir Júlíusson og Sigurður Guðmundsson.

Fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um björgun flutningaskipsins Alma sem missti stýrið fyrir utan Hornafjarðarós. Hafnsögumennirnir Sigurður Guðmundsson og Vignir Júlíusson voru á vaktinni, Vignir sem lóðs og Sigurður sem skipstjóri, og lóðsuðu skipið út. Þeir félagar lýstu atburðarásinni fyrir blaðamanni; „Við fórum út með Ölmu frá bryggju klukkan tvö um nóttina. Þetta er um 100 metra langt skip og 3800 tonn að stærð. Eins og venjulega við þessar aðstæður fór lóðsinn frá borði inn á ósnum og fylgdumst við með skipinu fara út Grynnslin í austur, bestu leið og fer vel með sig. Þá snérum við frá og höldum til hafnar. Alma er svo komin um 1,5 mílu frá Hvanney þegar við tökum eftir á skjánum sem sýnir feril og stefnu skipsins að það virðist beygja allhratt á stjórnborða og fer í hring. Þá kölluðum við skipið upp og spurðum hverju sætti og svarið var að þeir sögðust ekki vita það. Þar sem lóðsbáturinn var næstum kominn inn til hafnar aftur var ákveðið að snúa þegar

í stað við og kanna málið. Þegar lóðsbáturinn er kominn í sjónlínu við skipið var kallað aftur og spurt hvort eitthvað sé að hjá þeim. Skipstjórinn játaði því og sagði að eitthvað væri að stýri skipsins sem léti ekki að stjórn. Þá var skipið um 1200 metra frá Hvanney en varla nema um 400 metra frá Þinganesskerjum og hafði varpað akkeri. Sigldum við þá aftur fyrir skipið og vorum sammála um að líklegast væri engin stýrisblaðka til staðar. Við lögðum til að Björn lóðs tæki skipið í tog til að forða því frá að reka upp í fjörur því skipið dró akkerið og kom ekki í veg fyrir rek. Féllst skipstjórinn strax á það. Ágætis veður var á leiðinni út en mikill veltingur og svo byrjaði að hvessa nokkuð snögglega þegar við komum austur undir Borgeyjarboða. Vandræðalaust gekk að koma tauginni milli skipanna og kölluðum við strax eftir allri aðstoð frá Vaktstöð siglinga sem gerði viðkomandi aðilum grein fyrir ástandinu. Við mátum það þannig að miklar líkur væru á að skipið færi upp í fjöru. Þó að

fjarlægðin hafi verið þessi þá hefði skipið strandað nokkuð frá landi vegna þess að grunn er út frá fjörunum. Fljótlega eftir að Alma var tekin í tog lenti dráttartóg undir lúgu á mannopi á dekki lóðsbátsins. Lúgan kipptist upp í næsta strekk og skaust út fyrir borðstokkinn með látum. Við drógum skipið um 5 mílur austur fyrir Hvanney í miklum veltingi og slæmum aðstæðum þar sem Alma er látin fella akkeri og taug á milli Björns lóðs og Ölmu var sleppt. Hoffell tók síðan skipið í tog sem var þá um 2,5 mílur frá landi. Þá hafði bætt í vind og ölduhæð meiri. Björgunarskipið Ingibjörg ferjaði dráttartaug á milli Hoffells og

Það er verið að spyrja okkur út í björgunarlaun en það er útgerðaraðilinn þ.e.a.s. Hornafjarðarhöfn sem sér um það í svona tilfellum. Síðan skiptast björgunarlaunin milli útgerðar og áhafnar eftir ákveðnum reglum og ekki tímabært að velta fyrir sér þeim þætti á þessu stigi. Þó svo að Björn lóðs sé ekki stórt skip, reyndar pínulítill við hliðina á þessu mikla skipi sem Alma er þá er þetta óhemju duglegur og vel heppnaður bátur, öflugur miðað við stærð, lipur og með mjög mikinn stöðugleika. Það veitti svo sannarlega ekki af því í þessu tifelli þar sem dráttartaugin var ekki alltaf beint aftur af skipinu og veltingurinn mikill. Það gerði gæfumuninn að Björn lóðs réði við að draga skipið frá landi og út á öruggan sjó,“ sögðu þeir félagar að lokum.

Flutningaskiptið Alma. Ljósmynd: Sverrir Aðalsteinsson


2

Fimmtudagur 10. nóvember 2011

Arfleifð opnar útibú á Hornafirði

Eystrahorn

Garðyrkjufélagið Þyrnirós er vaknað

Garðyrkjufélagið Þyrnirós var vakið af værum svefni þann 5. október síðastliðinn er haldinn var endurstofnfundur/aðalfundur á Hótel Höfn. Ný stjórn var kosin og hana skipa: Óðinn Eymundsson formaður, Hrafnhildur Magnúsdóttir og Lovísa Bjarnadóttir meðstjórnendur og þær Inga Rún Guðjónsdóttir og Kristjana Jensdóttir voru kosnar sem varamenn. Þyrnirós verður með kransanámskeið þriðjudaginn 22.nóvember kl. 19:00. Leiðbeinandi er Valborg Einarsdóttir garðyrkjufræðingur. Hægt er að velja á milli þess að gera hurðakrans eða aðventukrans. Allt efni er innifalið. Verð fyrir félagsmenn er kr. 5000 og kr. 7500 fyrir aðra. Skráning er í síma 696-3067 hjá Ingu Rún og ber að skrá sig eigi síðar en föstudaginn 18.nóvember.

Hafnarkirkja

Hönnuðurinn Ágústa Margrét Arnardóttir og kjóla- og klæðskerameistarinn Ragnheiður Hrafnkelsdóttir hafa nú sameinað krafta sína og munu opna dyrnar að nýrri vinnustofu og verslun Arfleifðar í "Kartöfluskemmunni" næstkomandi sunnudag. Þar munu þær sýna nýjustu vörur Arfleifðar, kynna næstkomandi sýningar og verkefni. Arfleifð hefur hingað til eingöngu verið með vinnustofu og verslun á Djúpavogi og notað fjölbreyttar sýningar víða um land til að kynna vörur sínar. Nýlega hefur hún fengið Ragnheiði til liðs við sig og saman stefna þær á frekari vöxt Arfleifðar og bættri þjónustu við Hornfirðinga.

Dagskrá Arfleifðar á Hornafirði á næstunni: 12. nóvember Veiðisögur og Villt á Fosshótel Vatnajökli 13. nóvember Opnunarteiti milli 16:00-19:00. 14. - 16. nóvember Verslun opin frá 11:00-15:00. Desemberopnun verður auglýst síðar.

Tapað / fundið Tapast hefur svartur Zo on anorakkur Uppl í síma 895-2115 Snorri

Full búð af nýjum vörum Opið á laugardögum kl. 13:00 - 16:00

Verslun Dóru

@VjekVc\jg ' Æ ,%% :\^ahhiVÂ^g Æ H b^ *-% ,.%* Æ ;Vm *-% ,.%& www.inni.is =V[cVgWgVji &* Æ ,-% = [c Æ H b^ *-% ,.&* Æ ;Vm *-% ,.&&

FÉLAG FASTEIGNASALA

lll#^cc^#^h Æ ^cc^5^cc^#^h

Hilmar Gunnlaugsson, Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

hrl.HornafjarðarMANNI og lögg. Útgefandi:............ Ritstjóri og s. 580 7902 ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: . ............ albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:......... Maríus Sævarsson Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: ............. Litlaprent ISSN 1670-4126

Sóknarprestur

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911 Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901 Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

Eystrahorn fasteignasali

sunnudaginn 13. nóvember Sunnudagaskóli og messa kl. 11:00

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Sigríður Kristinsdóttir, lögmaður

Hæðagarður

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari s. 580 7908

LAUST STRAX

Vel skipulagt 134,7 m² íbúðarhús og 49 m² bílskúr, samtals 183,7 m² Mikið endurnýjað hús.

Miðtún

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali s. 580 7916

Gott einbýlishús ásamt bílskúr og stórri verönd miðsvæðis á Höfn. Fasteignin skiptist í 135m² íbúð og 33.5 m² bílskúr og geymslu, auk ca 70 m² verönd með skjólveggjum.

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali s. 580 7907

Tjarnarbrú

Skemmtileg og rúmgóð 74,4 m² 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í þríbýli. Sérinngangur, 28 m² bílskúr.


Eystrahorn

Fimmtudagur 10. nóvember 2011

3

Miðbær 10 ára

Á ferðalagi okkar hringinn í kringum landið fyrir rúmlega hálfum mánuði þá kynntumst við þeirri hugmynd frá FNV að halda eins og þau kalla það, Metakvöld. Við ætlum að fá þessa hugmynd lánaða og færa hana yfir á hornfirskt plan og mun það plan kallast MEISTARAMÓT FAS. Á þessu kvöldi verður keppt í ýmsum ónytsamlegum þrautum og keppnum uppi á sviði sem verður sett upp í matsalnum í Nýheimum. Þrautirnar verða af ýmsu tagi en þar má nefna að slökkva á kertum með sápukúlum, frostpinnaát og að mata aðra einstaklinga blindandi en þetta er aðeins brotabrot af þrautunum sem verður keppt í en þær munu verða hátt í 20 talsins. Valdir verða keppendur úr hópi áhorfenda og er viðburðurinn opinn öllum Hornfirðingum og mun kosta litlar 500 krónur inn. Mótið verður haldið þriðjudagskvöldið 15. nóvember í Nýheimum og opnar húsið kl. 19:30 og byrjar fjörið kl. 20:00 stundvíslega og verða veitingar seldar á staðnum. Viljum sjá þig og þitt breiða bros! Stjórn nemendafélags FAS

Rithöfundakynning Árleg rithöfundarkynning Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar verður í Pakkhúsinu þriðjudaginn 29. nóvember næstkomandi en ekki föstudaginn 25. nóvember eins og fram kom á viðburðadagatalinu. Kynningin hefst klukkan 20:00 og munu rithöfundar lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. Ókeypis er á kynninguna en nánari upplýsingar um rithöfundana sem fram koma munu birtast á samfélagsvefnum og í Eystrahorni þegar nær dregur.

Líður þér nægilega vel í skrokknum? Úrval af rúmum og hægindastólum

Konukvöld Í kvöld kl. 20:00

höldum við hið árlega konukvöld og eigum notalega stund saman Léttar veitingar og ýmis tilboð Opið virka daga kl. 13 - 18 Laugardaga kl. 13 - 15

Húsgagnaval Sími 478 - 2535 / 898 - 3664

Guðrún Ingólfsdóttir ekkja Ásgríms Halldórssonar fyrrv. kaupfélagsstjóra ásamt stjórnarformanni og kaupfélagsstjóra KASK klippir á borða 15. nóvember 2001

Verslunarkjarninn Miðbær verður 10 ára þann 15. nóvember n.k. Í tilefni afmælisins verður viðskiptavinum boðið í afmæliskaffi og tertu ofl. frá kl. 10:00 – kl. 18:00 á þriðjudeginum. Nettó og aðrir verslunarog þjónustuaðilar í Miðbæ verða síðan með ýmsar uppákomur, tilboð ofl. út vikuna (nánar auglýst síðar). Óhætt er að segja að Miðbærinn hafi fyrir löngu sannað gildi sitt fyrir íbúa sveitarfélagins og alla þá ferðamenn sem sækja okkur heim. Með tilkomu lágvöruverslunarinnar Nettó í Miðbæ í mars árið 2007 hefur umferð um verslunarkjarnann aukist mikið og samkeppnisstaða styrkst gagnvart suðvesturhorninu. Á þessum tímamótum er verið að skoða mögulega stækkun á húsnæði Nettó í Miðbæ svo verslunarkjarninn geti haldið áfram að þróast í takt við aukin viðskipti í Hornafirði. Allir viðskiptavinir eru boðnir velkomnir að fagna með okkur 10 ára afmæli Miðbæjar þann 15. nóvember n.k. Hittumst í miðbænum.


4

Fimmtudagur 10. nóvember 2011

Einar Björn kaupir Pakkhúsið

Eystrahorn

Kaffihúsastemning

á Kaffi Horninu laugardagskvöldið 12. nóvember milli klukkan 22:00 og 1:00 Rauðir dreglar, Guggurnar ásamt gestasöngvurum og Dinnerdúkkunum syngja og spila af fingrum fram Magnað kvöld með hornfiskum skemmtikröftum

Frítt inn Verið velkomin Sarfsfólk Kaffi Hornsins

Sveitarfélagið hefur tekið tilboði í Pakkhúsið. Kaupandi er Einar Björn Einarsson, sem kenndur er við Jökulsárlón og rekur ferðaþjónustufyrirtæki þar sem allir þekkja. Tilboðið hljóðar uppá 23 milljónir króna og verið er að ganga frá kaupsamningi. Einar Björn tjáði blaðamanni að hann hugsaði sér að í húsinu verði starfsemi sem tengdist menningu og ferðaþjónustu m.a. veitingarekstri og að Heimamarkaðurinn hafi aðstöðu þar áfram. Hann hefur jafnvel hug á að stofna hlutafélag um húsnæðið og svo kemur til greina að annar rekstraraðili taki að sér reksturinn. Hjalti Þór bæjarstjóri sagði blaðamanni að um leið og endanlegur samningur verður samþykktur er gert ráð fyrir að samþykkja flutning á Gömlubúð á Heppusvæðið sem næst upphaflegu staðsetningu hússins.

Ólöf K Ólafsdóttir

augnlæknir verður með stofu 21. - 24. nóvember n.k. Tímapantanir í síma 470-8600 virka daga. Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Rækjusala

7. bekkur er að selja rækjur og rennur ágóðinn í ferðasjóð.

2,5 kg á 4.000-

Pantanir hjá: Önnu Björgu s. 478-2210 / 894-0499 Rögnu s. 478-2019 / 866-6364

Umsóknir óskast Handverksmarkaður verður haldinn í Pakkhúsinu laugardaginn 19.nóvember. Handsverksfólk með sölubás. Skráning fer fram í gegnum síma 690-0203 / 846-0161

Kaffi Hornið

Jólahlaðborð Alla laugardaga í desember frá kl 19:30

Forréttir: • Ýmsar tegundir af pate • Sildarsalöt • Reyktur og grafinn lax • Reykt og grafin gæs • Andaconfit • Andalifrarkæfa • Grafið lamb Aðalréttir: • Hangikjöt • Bayonneskinka • Hunangsskinka • Purusteik • Lambalæri • Hreindýrabollur • Andabringur • Gæsabringur • Hreindýravöðvi

Meðlæti: • Tilheyrandi sósur • Heimagerð lauksulta • Heimagert rauðkál • Döðlusalat • Waldorfsalat • Rúgbrauð • Laufabrauð Eftirréttir: • Ris ala mande • Súkkulaðifromage • Konfekt • Skyrkaka • Marengstoppar

Borðapantanir í síma 478-2600 Verð kr. 6.500,Gerum tilboð fyrir hópa Verið velkomin

Starfsfólk Kaffi Hornsins Kæru bæjarbúar Mánudaginn 14. nóvember verður opið hús í leikskólanum Lönguhólummilli kl 11:00 - 14:00. Þá gefst bæjarbúum kostur á að koma í heimsókn til okkar og skoða þær breytingar sem hafa orðið á húsnæði leikskólans. Hlökkum til að sjá ykkur

Starfsfólk og börn Lönguhólum


Eystrahorn

Fimmtudagur 10. nóvember 2011

5

Ósanngjörn umræða taka restina á næstu dögum. Það er hinsvegar vont að geta ekki sett girðinguna aftur upp til að aðskilja félagsræktina frá landi Lífsvals og til að báðir aðilar geti haft þá möguleika að hafa búpening úti við ef til kæmi.

Mjög ómakleg umræða hefur verið í fjölmiðlum undanfarið vegna hreindýra sem hafa verið að flækjast og festast í girðingum síðustu vikur í landi Flateyjar á Mýrum. Hefur umræðan verið á þann veg að þetta sé eingöngu bændum að kenna og þeim standi slétt á sama og aðhafist ekkert í málunum. Þá hafa bloggheimar logað í þessum umræðum og verið skrifað á þeim vettvangi að bændur séu upp til hópa dýraníðingar, hirði hreindýraarðinn og loki svo bara augunum. Bændur í Flatey fá engan hreindýraarð þar sem landið utan girðingar er í eigu ríkisins. Meðal hreindýraarður bænda í sýslunni dugar fyrir um 30 girðingarstaurum eða hálfum áburðarsekk. Umhverfisverndarsamtök hafa farið mikinn í umræðunni og lagt málið mjög einhliða upp í fjölmiðlum. Umræðan snýst aðallega um það að bændur fari ekki að girðingarlögum og vitna gjarnan í lög og reglugerðir um girðingar. Engum dylst það að þær myndir sem birst hafa í fjölmiðlum og á heimasíðu umhver fisverndarsamtakanna eru óhugnanlegar. Til dæmis er ein mynd af dauðu hreindýri með appelsínugulan borða vafinn utan um sig. Þessi borði var fastur á staur utan við íbúðarhúsið í Flatey og var notaður á hverjum degi við að randbeita kúm og mjög hæpið að girðingarlög nái inn í húsagarða. Það skal tekið fram að girðingin umhverfis Flatey, þ.e. félagsræktin og land Lífsvals telst búfjárheld samkv. lögum og reglugerðum um girðingar og var vottuð af undirrituðum fyrir fjórum árum þegar girðingin var girt ný. Umrædd rafgirðing er umhverfis félagsræktunina og því innan stóru girðingarinnar og kemst ekkert búfé að henni. Búið er að taka um 2 km af rafgirðingunni og stendur til að

Á það skal einnig bent að ef rafgirðingin yrði löguð og sett upp aftur yrði hún sama slysagildran eins og hún lægi niðri, því hreindýr hafa verið að flækja sig og drepast í girðingunum frá því þau fóru að halda til á svæðinu. Breytir engu hvort girðingin er uppistandandi eða niðri. Þannig að jafnvel þó svo að þessi rafgirðing verði tekin munu hreindýrin slíta og flækja sig í girðingum eftir sem áður. Þetta er ekkert einsdæmi í sýslunni og hafa bændur á öðrum svæðum einnig lent í sama tjóni og bændur á Mýrum. Umhverfisstofnun er með eftirlitsmenn á sínum vegum sem fylgist með hreindýrunum hluta til úr árinu aða meira. Svo virðist vera að umhverfisstofnun og umhverfisverndarsamtök tali ekki sama mál. Ef dýr festist í girðingu eða öðru þvílíku virðist ekkert sjálfgefið að það megi ná dýrinu og losa það við draslið líklega vegna mjög strangra laga um friðun villtra dýra. Samt sem áður er bóndanum eða umráðamanni girðingarinnar kennt um. Um daginn sagði talsmaður hjá Umhverfisstofnun í fjölmiðlum um hreintarfa sem fastir voru saman á hornunum að ekkert yrði aðhafst á meðan þeir hefðu eðlilega hreyfigetu, þeir fari bráðum að missa hornin og myndu þá losna. Ég get ekki ímyndað mér að það geti talist eðlileg hreyfigeta að vera fastur með hausinn við einhvern annan í viku eða tvær, það þarf allavega að vera gott samkomulag milli beggja aðila. Hvað með dýraverndarsjónarmið? Það má taka sem dæmi að álftin er algerlega friðuð og hefur tjón bænda verið gríðarlegt síðustu ár vegna skemmda af þeirra völdum á kornökrum og túnum og má ekki með nokkrum hætti verjast þessum vágesti með fækkun. Á hverju ári drepast hundruð álfta þegar þær fljúga á rafmagnslínur, ætti þá ekki að skikka Rarik eða Orkustofnun að grafa allar línur í jörð?

Með þessu er ég ekki að tala gegn umhverfisverndarsinnum heldur þvert á móti, nauðsynlegt er að umræðan sé málefnaleg, vönduð en ekki öfgakennd og einhliða. Umhverfisstofnun ætti að beita sér fyrir því að lögum verði breytt þannig að handsama mætti dýr sem lenda í þessu og krefjast aukinna fjárframlaga frá ríkinu til að standa straum að þeim kostnaði. Björgunarsveitir hafa verið að aðstoða hreindýraeftirlitsmenn á svæðinu við að losa dýrin oftar en einu sinni og fá þær ekkert greitt fyrir það. Ábyrgðin að mínu mati liggur að stórum hluta hjá Umhverfisstofnun.

Þetta mál er ekki hægt að einfalda með neinum hætti miðað við núverandi lög og reglugerðir um girðingar og friðun villtra dýra. Rafgirðingin verður tekin af svæðinu en það mun ekki breyta því að girðingu vantar á þetta svæði og treystir bóndinn sér ekki til að bera þann kostnað við viðhald og uppsetningu. Það mun samt sem áður engu máli skipta hvort girðingin sé uppistandandi eða ekki, hreindýrin munu samt flækja sig í henni og skemma fyrir hundruð þúsunda á hverju ári. Forsendur fyrir girðingalögum eru brostnar í þessum tilvikum þar sem óeðlilegt er að bændur beri einir kostnað sem hlýst af tjóni af völdum hreindýra. Bændur í Flatey og þeir sem nýta félagsræktina hafa á hverju vori lagað girðingarkafla þar sem mesta álagið er í það minnsta tvisvar á ári. Umræddur gaddavír sem fannst í hreindýrum er úr þeirri girðingu þannig að ekki er hægt að sakast við bændur vegna þess. Og er því ekki hægt að segja að þeir sinni ekki sínum skyldum. Undirritaður framkvæmdi úttekt á tjóni á girðingum og ræktarlandi í Flatey sem rekja má beint til

hreindýra. Kostnaður bóndans sem nytjar félagsræktina er 1.609.146 kr. vegna girðinga og 1.679.250 kr. Alls kr. 3.288.396 á einungis 4 – 5 árum og er þetta varlega útreiknað. Þá var einnig lagt mat á tjón á ræktun og girðingum af völdum hreindýra hjá bændum í Flatey, þ.e. ekki þeirra sem eru í félagsræktinni. Í sumar þegar kornið var að koma upp var mjög mikið beitarálag á þessu svæði og að jafnaði milli 100 og 150 dýr þarna á beit hreindýrin átu um 25 ha af korni, 2 ha af vetrarhveiti og eyðilögðu um 17 ha af vallarfoxgrasi þannig að sáðgresisþekjan þar er nú einungis um 20% vallarfoxgras.

Auk þessa er kostnaður við girðingarviðhald á um 500.000 kr. á ári. Tjónið á ræktarlandinu er með girðingarkostnaði hjá Flateyjarbændum um 8.480.000 kr. og það bara í sumar. (Nánari forsendur er hægt að nálgast hjá undirrituðum) Það er hins vegar spurning hvort ekki ætti að fækka hreindýrum á þessum slóðum vegna mikillar fjölgunar dýra þarna. Í það minnsta ætta að fella fleiri tarfa þar sem allt of mikið er af þeim á svæðinu. Það er ekki hægt að segja að bændur eigi bara girða hærri girðingar þar sem það hefði verulegan kostnaðarauka í för með sér, og af hverju ættu bændur að fara girða fyrir hreindýr á sinn kostnað. Best væri að grisja í hjörðunum, eins í álftastofninum þar sem þessar skepnur geta greinilega ekki séð sér fyrir fæðu nema í ræktunarlöndum bænda með tilheyrandi tjóni fyrir þá. Þessi mál þarf að leysa á þann hátt að allir hafi hag af og setja hugtakið um dýravernd á hærra plan. Virðingafyllst Grétar Már Þorkelsson Búnaðarsambandi Suðurlands


6

Fimmtudagur 10. nóvember 2011

Eystrahorn

Lönd til sláttar og beitar í landi Hafnar

Lögheimilis- og aðsetursbreytingar

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir umsóknum í lönd til sláttar og beitar í landi Hafnar, um er að ræða SLÁ 2 og SLÁ 4 og B17. Öll gögn er málið varðar má nálgast inni www.hornafjordur.is og í afgreiðslu sveitarfélagsins í Ráðhúsi.

Fyrir 1. desember 2011 eiga þeir sem búsettir eru í Sveitarfélaginu Hornafirði en eru ekki með lögheimili þar samkvæmt síðustu íbúaskrá, að hafa fyllt út flutningstilkynningu til Hagstofu Íslands og tilkynnt rétt lögheimili, sbr.lög nr. 21/1990.

Umsóknarfrestur er frá og með 7. nóvember og til 1. desember 2011 og skal skila inn umsóknareyðublöðum á þar til gerðum eyðublöðum. Allar nánari upplýsingar veitir Haukur Ingi Einarsson netfanginu haukuri@hornafjodur.is

Jólastell - Jólastell Pantanir teknar til 26. nóvember

Barnaföt í stærðum 56 og uppúr Verið velkomin

Það sama gildir um þá sem hafa flutt innan sveitarfélagsins en þeir eiga að tilkynna um flutning eigi síðar en sjö dögum eftir að hann á sér stað. Hér með er skorað á alla þá sem ekki hafa gengið frá þessum málum að ljúka því hið fyrsta. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að kæra þá íbúa inn á íbúaskrá sem ekki verða við þessari áskorun en eiga samkvæmt lögheimilislögum að vera skráðir með heimili sitt í sveitarfélaginu. Eyðublaðið liggur frammi á bæjarskrifstofu og er einnig á vef Þjóðskrár Íslands: http://www.skra.is/pages/1031 Höfn 8. nóvember 2011 Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri


Veitingahúsið Víkin opnar 11. nóvember Víkin opnar aftur eftir breytingar með RISA veislu sem Skíðadeild Sindra heldur þann 11. nóvember. Þar verður boðið uppá kræsingar frá öllum heimshornum. Dansleikur verður að loknu borðhaldi og hefst hann kl. 23:30. 18 ára aldurstakmark er á dansleik. Miðapantanir í síma 772-4205. Allir velkomnir.

Dúndur pizzatilboð verður þriðjudaginn 15. nóvember til sunnudagsins 20. nóvember. 16“pizza með 2 áleggst. á 1000 kr ef þú sækir Eftir frábæra og vel lukkaða tónleikaferð um landið í sumar hafa meistararnir Gylfi, Rúnar og Megas ákveðið að snúa aftur á Hornafjörð og halda tónleika á Víkinni föstudagskvöldið 18. nóvember næstkomandi. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 Mætið tímanlega til að ná ykkur í sæti því ekki verður hægt að panta miða á tónleikana.

Miðaverð 2000 kr. Fordrykkur verður í boði Víkurinnar. 18 ára aldurstakmark.

Ljúffengt og glæsilegt jólahlaðborð á Víkinni 2. og 3. desember Veislustjóri verður engin annar en Ómar Ragnarsson og mun hann skemmta gestum með söng, gríni og glensi af sinni alkunnu snilld

Hljómsveitin ZONE tekur svo við og spilar fyrir dansleik frameftir nóttu Forrétir Jólasíld og karrýsíld, Sjávarréttasalat,Grafinn lax með sinnepssósu, Reyktur lax með piparrótarsósu, Sjávarréttapate, villibráðapaté með cumberlandsósu, Grafnar gæsbringur með geitaosti, Hangikjöts tartar með kartöflum og dilli Aðalréttir Hægeldaður lambavöðvi, Sinnepsgljáður hamborgarhryggur, Hvítlauks bökuð kalkúnabringa, Grísa-purusteik Eftirréttir Ris a la mande með ristuðum möndlum, Epla og rabbarbara baka, Sherry triffle og maccaronur , Jólaís að hætti kokksins Meðlæti Ekta jólasalat, Heimalagað rauðkál, Gular og grænar baunir Gratineraðar kartöflur, Sykurbrúnaðar kartöflur, Smjörsteikt grænmeti, Rauðvínssósa, Villisveppasósa, Laufabrauð, rúgbrauð.

Verð 7.800,- kr. (6.800 kr. í forsölu)

Forsala verður til 24. nóvember. Miðapantanir í síma 863-1269


markhonnun.is

KJÚKLINGABRINGUR

OKKAR

Kræsingar & kostakjör

297 KR

1.998

kr/kg áður 2.295 kr/kg

GÓÐAR VÖRUR – FJÖLBREYTT ÚRVAL! GRILLBORGARAR 4 STK. MEÐ BRAUÐI

LAMBAFRAMHRYGGJASNEIÐAR FERSKAR

GRÍSAPOTTRÉTTUR

FERSKUR Í SVEPPASÓSU

30%

afsláttur

209 KR

559kr/pk.

1.989

kr/kg áður 2.198 kr/kg

FROSNIR ÁVEXTIR

SUMMER FRUIT SALAT 454 G

1.189

kr/kg áður 1.698 kr/kg

áður 698 kr/pk.

FROSNIR ÁVEXTIR

SUNBURST MANGO 454 G

BEYGLUR

BOUNTY 5 í pakka

HREINAR/KANIL OG RÚSÍNUM

40%

afsláttur

299

kr/pk. áður 498 kr/pk.

279 KR

2 FYRIR 1

419

519

kr/pk. áður 698 kr/pk.

HVÍTLAUKSBRAUÐ 1 STK. 175 G

95

kr/stk. áður 119 kr/stk.

kr/2 PK. FRÁBÆRT VERÐ!

TORTILLUR

2 FYRIR 1

289

kr/2 PK. FRÁBÆRT VERÐ!

FRANSKAR 1 KG

8 STK. 20 CM

2

FYRIR 1

339kr/2 PK. FRÁBÆRT VERÐ!

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes

32%

258

afsláttur

kr/pk. áður 379 kr/pk.

Tilboðin gilda 10. - 13. nóvember eða meðan birgðir endast

BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR OG MYNDAVÍXL

40% 199 KR

afsláttur


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Eystrahorn 40. tbl. 2011 by Héraðsfréttablaðið Eystrahorn - Issuu