Skip to main content

Eystrahorn 37. tbl. 2011

Page 1

Eystrahorn 37. tbl. 29. árgangur

Fimmtudagur 20. október 2011

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Fjölgun gesta í Vatnajökulsþjóðgarði Skaftafellsstofa hefur verið opin alla daga ársins ef undanskildir eru fjórir dagar sem var lokað vegna öskufalls frá Grímsvatnagosinu í maí. Frá því farið var að hafa opið allt árið hefur fjöldi gesta aukist stöðugt flesta mánuði utan háannatímans og má nefna sem dæmi að fjöldi gesta í september jókst um 26% frá því í fyrra og alls um 50% frá árinu 2009. Fjöldi sumarstarfsmanna var svipaður og í fyrra, flestir eru við störf í Skaftafelli, en einnig var landvörður á Höfn í þrjá mánuði og í 6 vikur á Lónsöræfum. Þá var í sumar eins og í fyrra, upplýsingagjöf á vegum þjóðgarðsins í Skálafelli, Hólmi og Hoffelli. Störf landvarða eru að stórum hluta upplýsingagjöf og önnur þjónusta við ferðamenn, en þeir sinna einnig öðrum verkefnum svo sem fræðslugöngum, eftirliti, talningum, viðhaldi á göngustígum, merkingum og fleiru. Daglega var boðið upp á tvær gönguferðir og barnastund í Skaftafelli og í fyrsta skipti var nú einnig boðið upp á fræðslugöngur á svæðinu við Heinaberg einu sinni í viku. Íslendingum sem tjölduðu í Skaftafelli fækkaði umtalsvert milli ára en vætusamt sumar, umfjöllun um öskufall á svæðinu og jafnvel hátt eldsneytisverð á eflaust allt sinn þátt í því. Í byrjun sumars opnaði Svavar Jónatansson ljósmyndasýningu í Skaftafelli og stendur hún ennþá yfir. Um leið frumsýndi hann einnig kvikmynd sína Inland Vatnajökull sem er sýnd alla daga. Kvikmyndin er samansett úr ljósmyndum sem Svavar hefur tekið úr rútum og flutningabílum sem hann hefur ferðast með á öllum árstímum og öllum tímum dags um suðursvæðið. Þá var Guðrún Ingólfsdóttir með málverkasýningu í

veitingasalnum í Skaftafelli í sumar með landslagsmyndum úr sveitarfélaginu. Einnig voru fjórir opnir fyrirlestrar vísindamanna sem voru við rannsóknir í nágrenni Skaftafells í sumar. Í sumar var stikuð gönguleið um Heinabergssvæðið. Upphaf hennar er við bílastæðið framan við Heinabergslón þar sem þurrsalerni er staðsett. Vegagerðin hefur lagt okkur lið við að bæta aðgengi að Heinabergssvæðinu með því að laga veginn að Heinabergslóninu, Heinabergsfelli og áleiðis að Bólstað. Í Skaftafelli var stikuð ný gönguleið yfir Morsárdal frá göngubrúnni við Götugil, um gamlan farveg Skeiðarár inn að Réttargili við Bæjarstaðarskóg. Þá voru gerðar miklar lagfæringar á gönguleiðinni inn að Skaftafellsjökli og gönguleiðinni

að Svartafossi. Á báðum þessum leiðum hefur grjóthrun úr klettum skapað hættu fyrir göngufólk og þurfti að færa þær til af þeim sökum. Leiðin að Skaftafellsjökli verður fær hjólastólum alla leið að lóninu framan við jökulinn. Á nýjum svæðum innan þjóðgarðsins í Hoffellsfjöllum og í Hjallanesi við Skálafell hafa nýlega verið stikaðar gönguleiðir auk þess sem fjöldi gönguleiða er í Lónsöræfum. Sauðfjárbeit er á nokkrum stöðum innan þjóðgarðsins og er nú líklega flest fé að verða komið af fjalli. Samkvæmt reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð er heimilt að aka vélknúnum ökutækjum utan vega vegna starfa við landbúnað ef ekki er unnt að framkvæma viðkomandi störf á annan hátt og fyllstu aðgátar er gætt. Hafa skal fullnægjandi útbúnað til slíks

aksturs og því er ekki leyfilegt að nota mótorhjól í þessu skyni þar sem mjó dekk þeirra geta skilið eftir ljót ör í landinu. Á það einnig við í friðlandinu á Lónsöræfum. Nýverið var sett upp fyrsta fræðsluskiltið af þremur við Hoffellsjökul og starfsmenn þjóðgarðsins eru með skilti og bæklinga fyrir fleiri staði í vinnslu sem stefnt er að koma upp fyrir næsta sumar. Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér Vatnajökulsþjóðgarð er bent á að síðsumars kom út bókin Leiðsögn um Vatnajökulsþjóðgarð eftir Hjörleif Guttormsson. Einnig bendum við á heimasíðu þjóðgarðsins www.vjp.is og svo erum við líka á Facebook. Sjáumst í þjóðgarðinum. Starfsfólk á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook