Eystrahorn Fimmtudagur 13. október 2011
36. tbl. 29. árgangur
www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is
Sýning á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Listasafn, opnar sýningu á verkum Jóns Þorleifssonar frá Hólum laugardaginn 15. október klukkan 15:00. Sýningin mun standa til 30. desember. Listasafnið er opið alla virka daga frá klukkan 9 til 12 og 13 til 15:30 og er aðgangur að sýningunni ókeypis. Jón Þorleifsson fæddist í Hólum árið 1891. Fljótlega kviknaði áhugi hans á að mála og 18 ára gamall hélt hann til Kaupmannahafnar til að hefja nám í málaralist við Teknisk Selskabs Skolen. 21 árs hélt hann svo fyrstu málverkasýninguna sína á Seyðisfirði og sama ár hóf hann nám í Académie de Croquis í París þar sem hann dvaldi í eitt ár. Næstu ár flakkaði hann svo á milli Danmerkur, Frakklands og Íslands þar sem hann málaði ýmist eða hélt málverkasýningar. Eftir dvöl erlendis settist Jón að með fjölskyldu sinni í Blátúni, húsi sem hann byggði sem vinnustofu og heimili, í Vesturbæ Reykjavíkur. Jón tók virkan þátt í félagsstarfi myndlistarmanna og starfaði um árabil sem gagnrýnandi Morgunblaðsins. Á meðal verka Jóns voru 33 metra langt málverk í New York og altaristafla úr Bjarnaneskirkju, sem sýnir fæðingu frelsarans, en það verk er á sýningunni. Verkin á sýningunni eru flest í einkaeigu auk verka frá Listasafni Íslands og verka sem eru í eigu Sveitarfélagsins. Á sýningunni verður einnig hægt að skoða umfjöllun um Jón, gagnrýni hans og ritdeilur sem hann átti í við hina ýmsu listamenn.
Til næturinnar
Óskar Guðnason
Kristín Jónsdóttir
Í lok árs 2009 kom út ljóðabókin Bréf til næturinnar eftir Kristínu Jónsdóttur, frá Hlíð í Lóni sem hefur fengið mjög góðar viðtökur og lof fyrir listfengi og fallegt íslenskt mál. Hin sterku tengsl við náttúruna sem víða birtast í ljóðunum og túlkun tilfinninga sem höfundur tjáir á opinskáan og einlægan hátt skapa ljóðunum sérstöðu meðal íslenskra ljóða. Í vetur fékk bókin góða kynningu í Kiljunni hjá Agli Helgasyni, þar sem að Kristín las upp ljóðið Mynd og segja má að sem fyrsta bók höfundar þá hafi hún slegið verðskuldað í gegn. Nú er að koma út geislaplata með 10 af ljóðunum úr bókinni og er tónlistin öll samin af Óskari Guðnasyni sem er fæddur og uppalinn á Höfn. Óskar hefur
Unnur Birna Björnsdóttir
Arnar Jónsson
gefið út nokkrar plötur áður með eigin efni og finnst honum þessi plata vera í heildina það besta sem hann hefur gert enda nýtur hann stuðnings þekktra hljóðfæraleikara og söngvara sem allir skila sínu verki með sóma. Unnur Birna Björnsdóttir syngur sjö af lögunum og Arnar Jónsson þrjú en undirleikarar eru Þórir Úlfarsson, Hafþór Smári Guðmundsson, Pálmi Gunnarsson, Óskar Guðjónsson, Þorsteinn Magnússon, Unnur Birna og Óskar sjálfur, sem þar að auki sá um útsetningar ásamt Þóri Úlfars. Bæklingur með ljóðunum 10 fylgir með plötunni og vonast Óskar til þess að hafa komið til skila í tónlistinni þeim hugblæ sem að finna má í ljóðunum.
Myndasamkeppni AFLs Í vikunni afhentu starfsmenn AFLs vinningshafa úr myndasamkeppni sumarsins um bestu myndina úr sumardvalarstöðum félagsins. Vinningshafi er Jón Benedikt Karlsson en hann hlaut að launum Canon Powershot SX130 myndavél. Mynnt er á að nú stendur yfir myndasamkeppni í tilefni að afhendingum nýrra íbúða félagsins og eru það myndir af Austurlandi, hvort heldur úr atvinnulífinu, af landslagi, fólki eða öðru sem fyrir augu ber. Myndir óskast sendar á myndir@asa.is