Eystrahorn 35. tbl. 2010

Page 1

Eystrahorn Fimmtudagur 30. september 2010

35. tbl. 28. árgangur

www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is

Góður árangur - ekki tilviljun Nemendum Grunnskóla Hornafjarðar gekk vel í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda eins og undanfarin ár. Frá því að Eiríkur Hansson kennari byrjaði að kenna nemendum að vinna nýsköpunarverkefni hefur skólinn tvisvar verið tilnefndur nýsköpunarskóli ársins og nemendur hafa alltaf náð góðum árangri sem eftir er tekið. Í ár sigraði Arndís Ósk Magnúsdóttir í hönnunarflokknum og Jóel Ingason lenti í þriðja sæti í flokknum orka og umhverfi. Guðrún Kristín Helgadóttir og Una Guðjónsdóttir komust einnig áfram með glæru brauðristina sína. Krakkarnir voru kát þegar blaðamaður hitti þau í skólanum og höfðu þetta að segja um þátttöku sína;

Guðrún Kristín Helgadóttir og Una Guðjónsdóttir „Við gerðum gegnsæja brauðrist. Hugmyndin kom vegna þess að við sáum brauð ristast of mikið og með gegnsæi er hægt að fylgjast með og þannig kom hugmyndin upp og þróaðist í þessari vinnu. Það var gaman í lokakeppninni að smíða hlutinn og smíðastofan var mjög stór. Báðar hafa þær keppt í legokeppninni en það var

svolítið öðruvísi, meiri stemning því að var liðakeppni.“

Arndís Ósk Magnúsdóttir „Ég gerði borð sem festist inn í þrepi á stiga til að hafa verkfæri á. Hægt er að færa borðið milli þrepa til hægðarauka fyrir þann sem er að vinna í stiganum. Hugmyndina fékk ég vegna þess að pabbi og mamma voru mikið að vinna í stiga og ég þurfti að rétta þeim áhöld. Það var mjög skemmtilegt að vinna í vinnusmiðjunni, að búa líkanið til og plakatið.“

Jóel Ingason Ég gerði krana sem lokast sjálfkrafa þegar vatnið er of heitt. Þetta er eins og vatnslás í bílum. Það þrýstist gormur með plasti framan á og lokar fyrir vatnið. Ég var heima og Eiríkur kennari lét mig hafa verkefni heim. Það var vont veður og mér var kalt og ætlaði að fá mér kakó. Ég lét heita vatnið renna úr krananum og brenndi mig á því. Þá hugsaði ég hvort ekki væri hægt að hafa krana sem lokaðist við ákveðið mikið hitastig. Keppnin

F.v. Una, Arndís, Eiríkur, Jóel og Guðrún.

var mjög skemmtileg í vinnusmiðjunni og við fórum öll í ævintýra minigolf að skemmta okkur. Ég fékk að halda ræðu og klippa á borðann með forseta Íslands. Upplýsingar um keppnina má finna inn á heimasíðu hennar www.nkg.is.

Ársfundur fræðasetra Háskóla Íslands á Hornafirði Staða og framtíð Nýheima var til umræðu á ársþingi Fræðasetra Háskóla Íslands sem haldið var á Hornafirði síðastliðinn mánudag. Þingið hófst á ræðu Kristínar Ingólfsdóttir, rektors Háskóla Íslands, sem lagði áherslu á að þrátt fyrir að móti blási væri það stefna Háskólans að halda áfram á þeirri braut Rögnvaldur Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson, að koma honum í fremstu Kristín Ingólfsdóttir og Þorvarður Árnason Rögnvaldur Ólafsson formaður röð í heiminum. Í ræðu sinni sagði hún jafnframt frá stjórnar Fræðasetursins, sem mikilvægi þess fyrir Háskólann var einn af þeim sem tók þátt að eiga í samvinnu við sem í stofnun þess á sínum tíma, flesta, við sveitarfélög, atvinnulíf fór yfir árangur af störfum mikilvægi rannsókna, og stofnanir um allt land. Það þess, skapaði nemendum og starfsfólki nýsköpunnar og þekkingarstarfs skólans mikla möguleika á að á landsbyggðinni. Í kjölfarið fylgdi breikka út fræðasvið skólans Þorvarður Árnason, núverandi og þjóna því hlutverki að vera forstöðumaður Fræðasetursins, aflvaki byggðaþróunar alls staðar sem sagði frá reynslu sinni Í ljósi á landinu. Sagði hún Nýheima við rekstur setursins. gott dæmi um vettvang fyrir harðnandi árferðis og minnkandi slíka sókn. Fræðasetur Háskóla fjárframlaga frá ríkinu hefur þurft Íslands í Nýheimum er elst í sinni að draga saman seglin, en setrið röð á landinu, stofnað árið 2001. hefur á undanförnum árum unnið

að stórum verkefnum í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, ferðaþjónustu og umhverfismála. Vikið var að árangri af starfi Nýheima og framtíð þess í erindi Hjalta Þórs Vignissonar, bæjarstjóra. Sagði hann að til þess að árangur ætti að nást í nýsköpunar- og þekkingarstarfi þyrfti að blanda saman aðstöðu, fjármagni og þekkingu. Þessi blanda væri til staðar í Nýheimum, þar sem margvíslegar stofnanir sem vinna á sviði menntunar, rannsóknar, nýsköpunar og menningar væru búin að ná fótfestu. Hann benti á að ýmsir sjóðir styrktu frumkvöðla og fyrirtæki s.s. atvinnu- og rannsóknasjóður sveitarfélagsins og matarsmiðjan væri gott dæmi um hvernig uppbygging aðstöðu gæti nýst til atvinnusköpunar. Fjölmargir sóttu ársþingið og vekja má athygli á að Ævar Kjartansson, útvarpsmaður, tók upp alla fyrirlestra og hyggst gera hluta þeirra skil í þætti sínum á Rás 1 á næstunni.

Í viðtali við blaðið hafði rektor Háskóla Íslands þetta um háskólasetrið í Nýheimum að segja; „Þetta er elsta rannskóknarsetur skólans og var einmenningssetur til að byrja með en nú starfa fimm einstaklingar á setrinu og hafa mest verið sex. Þessi starfsemi hér er stórkostleg, hún tekur mið af þessu svæði og er í samstarfi við samfélagið. Starfsemin lýtur ströngustu kröfum um hæfni starfsfólks og árangur. Starfsemin skilar margþættum afrakstri s.s. þekkingu, bæði til samfélagsins hér og Háskólans. Setrið nýtur alþjóðlegra tengsla og hjálpar HÍ að ná markmiðum sínum. Svo hefur setrið gefið nemendum hér tækifæri að vinna í heimabyggð og skapa þekkingu og störf. Ég finn fyrir því hér í Nýheimum að starfsemin er örvandi og nýjar hugmyndir kvikna. Það eru margir kostir og við setrið og það skilar miklu.“


2

Fimmtudagur 30. september 2010

Langa-Stína fullsköpuð

Listamaðurinn og humargyðjan.

Humargyðjan Langa-Stína stendur við veitingahúsið Humarhöfnina. Hún hefur verið í smíðum og þróun í allt sumar eða frá því í maí 2010 þegar rétta öspin fannst eftir langa leit og var felld í garði þeirra Önnu og Óla, en mikilvægt var að tréð hefði lögun humars. Ferlið var hægt og skapandi en byrja varð á að þurrka trjábolinn í tæpa tvo mánuði í óupphituðu húsnæði, eftir að börkurinn var fleginn af. Bolurinn var síðan fúavarinn og settur á undirstöður um mitt sumar og hefur síðan smám saman verið að fá á sig rétt útlit með hinum og þessum fylghlutum. Höfundur verksins er Arnfríður Gísladóttir, skurðstofuhjúkrunarkona og áhugamaður um útskurð. Verkið var unnið í samvinnu við eigendur Humarhafnarinnar og var lokið núna um miðjan september með nafngift Löngu-Stínu. Gestir

Humarhafnarinnar geta svo dýrkað humargyðjuna með því að gæða sér á humri og öðrum veitingum og njóta lífsins. Í tilefni dagsins samdi listakonan eftirfarandi limrur til heiðurs Löngu-Stínu. Úr trjábol með trjónu fína varð til ungfrú Langústína. Hún er ekki til sölu er í dýrðlingatölu ég votta henni virðingu mína. Hún Höfninni vernd sína veitir og víst er að bæinn skreytir þegar hátíð með humri er haldin að sumri hún sælkera soðningu heitir. Nú styttist í lokun hjá okkur eftir mjög gott sumar en Humarhöfnin lokar núna um helgina. Þökkum öllum sem okkur heimsóttu í sumar.

Bíó á sunnudaginn í Sindrabæ Barnasýning og önnur mynd um kvöldið. Nánar auglýst síðar.

Eystrahorn Sími: 862-0249 • Rnr. 0172 – 26 - 000811 • Kt. 240249-2949 Útgefandi:.................................HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.......................Albert Eymundsson Netfang: . .................................albert@hornafjordur.is Prófarkalestur:.........................Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:..............................Maríus Sævarsson Umbrot: ...................................Heiðar Sigurðsson Aðstoð:......................................Ásta Ásgeirsdóttir Prentun: ..................................Leturprent ISSN 1670-4126

Eystrahorn

VestNorden kynning

Rósa Björk Halldórsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls og Guðmundur Ögmundsson aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs sáu um „okkar“ bás sem vakti athygli. M.a. var nýja kynningarmyndbandið sem Ríki Vatnajökuls lét gera síðastliðinn vetur sýnt fyrir fullum sal af fólki. Myndbandið er á heimasíðu klasans www.visitvatnajokuls.is

Sunnlendingar vöktu verðskuldaða athygli fyrir góða liðsheild og samstöðu á VestNorden kaupsýningunni sem haldin var á Akureyri dagana 15. til 17. september sl. Sérstaklega var tekið eftir hvað básarnir okkar voru skemmtilega skreyttir, en ferðaþjónustuaðilar innan Markaðsstofu Suðurlands komu með hugmyndir um að samræma útlit sunnlensku básanna í lime-grænum lit. Blómaskreytingar, matur og drykkur úr hérði, dúkar og sérmerkt súkkulaði var á meðal þess sem notað var til að laða að erlenda ferðakaupendur á Suðurlands-svæðið. Nýr DVD-diskur um Suðurland og landshlutabæklingur voru sérstaklega kynntir öllum ferðakaupendum í Hofi

nýju menningarhúsi þeirra Akureyringa. Það var áberandi mikill hugur í sunnlenskum seljendum að koma sér á framfæri og greinilega mikil stemning fyrir landshlutanum. Í kjölfarið á þessari góðu kynningu hafa margir ferðaþjónustuaðilar sem ekki hafa verið aðilar að Markaðsstofu Suðurlands sett sig í samband og lýst áhuga á að eiga að henni aðild. Framundan hjá Markaðsstofunni er að kynna landshlutann með heimsóknum ferðakaupenda að utan og kynna fleiri þætti með ferðaþjónstunni, s.s. mat og menningu Myndir frá VestNorden sýningunni og ferð kaupenda um Suðurland fyrir sýninguna er að finna á vef Markaðsstofunar www. markadsstofa.is.

Úthlutun orlofsíbúða AFLs Eins og undanfarin ár þá verður orlofsíbúðum AFLs Starfsgreinafélags úthlutað um hátíðarnar, 22. - 29. desember og 29.desember - 5. janúar. Íbúðirnar eru í Reykjavík og á Akureyri. Frestur til að sækja um þessi tímabil er til 15. október. Stefnt er að því að úthlutun geti farið fram 22. október. Allir umsækjendur munu fá svarbréf við umsóknum sínum.


Eystrahorn

Fimmtudagur 30. september 2010

3

Gekk framar vonum Að sögn forsvarsmanna Heimamarkaðsbúðarinnar gekk hún framar vonum í sumar og versluðu þar að miklum hluta heimamenn og íslenskir ferðamenn. Nú er hins vegar búið að breyta aftur yfir í markaðssnið, þar sem verður markaður á hverjum laugardegi frá 13-16 í allan vetur. Reynt verður að bjóða upp á sem mest úrval af ferskum

matvörum sem og handverki úr héraði. Félagasamtök og hópar munu skiptast á um að vera með kaffisölu á markaðnum, þannig að fólk getur sest niður og fengið sér kaffi og meðlæti. Það er von allra sem að markaðnum standa að sjá sem flesta á laugardögum í vetur og að heimamenn nýti sér þetta tækifæri til að versla ferska vöru úr héraði.

Mikið að gera í Heimamarkaðsbúðinni.

U mb oð s að i l i Söguráðstefna í Þórbergssetri Ástæða er til að minna á söguráðstefnuna sem verður í Þórbergssetri 2 – 3 október næstkomandi.. Ráðstefnan er spennandi stefnumót íslenskra og erlendra fræðimanna sem hafa verið að fjalla um landnám fyrir landnám norrænna manna á Íslandi þ.e. ferðir papa eða keltneskra þjóða í Norðurhöfum áður en víkingar numu lönd. Ráðstefnan fer fram bæði á íslensku og ensku, en þýðingar verða tiltækar eftir því sem kostur er. Ráðstefnan ber yfirskriftina: LANDNÁM NORRÆNNA OG KELTNESKRA MANNA Á ÍSLANDI Málþingið er hugsað sem upphaf á rannsóknarsamvinnu íslenskra og erlendra fræðimanna sem mun standa fyrir nokkrum málþingum og ráðstefnum; meðal annars er áætlað að halda stóra alþjóðlega ráðstefnu á Suðausturlandi árið 2013 eða 2014. Vinnuheiti rannsóknarinnar er VIKINGS AND CELTS IN SOUTHEAST ICELAND: SAGAS, SOURCES AND SOCIETIES og markmiðið er að kanna möguleg tengsl Suðausturlands við nágrannalöndin – Færeyjar, Orkneyjar, Írland, Skotland og Noreg – á þeim tíma sem Ísland var numið. Nálgunin verður þverfagleg og leitað verður eftir samvinnu forleifafræðinga, sagnfræðinga, bókmenntafræðinga, málvísinda-

manna, mannfræðinga og þjóðfræðinga. Hér er um einstakan viðburð að ræða og heimamenn eru hvattir til að láta þessa ráðstefnu ekki fram hjá sér fara. Rásðtefnan er styrkt af Menningarráði Austurlands og Atvinnu - og rannsóknarsjóði Hornafjarðar

Um fyrirlesara: John Sheehan er fornleifafræðingur við Háskólann í Cork á Írlandi og hefur rannsakað minjar um papa og frumkristni í Færeyjum. Kristján Ahronson er Vestur Íslendingur og fornleifafræðingur við háskólann í Bangor í Wales. Marteinn Sigurðsson er norrænufræðingur við Kaupmannahafnarháskóla. Gísli Sigurðsson er rannsóknarprófessor við Árnastofnun, Háskóla Íslands. Andrew Jennings er rannsóknar-prófessor við Center for Nordic Studies á Orkneyjum. Skráning á ráðstefnu fer fram hjá Þórbergssetri netfang hali@hali. is, sími 478-1078 og Háskólasetri Hornafjarðar, s. 8482003. Ráðstefnugjald er krónur 12.000 á mann; Innifalið er morgunverður, kaffi og kvöldverður á laugardegi og morgunverður, hádegisverður og kaffi á sunnudeginum. Vonast er eftir góðri aðsókn fræðimanna og áhugamanna um sögu og uppruna íslensku þjóðarinnar.

DAGSKRÁ Laugardagur 2. október 10:00 Setning: Dr. Þorvarður Árnason forstöðumaður Háskólaseturs Hornafjarðar 10:10 Dr. John Sheehan : Dicuil, the Navigatio and the Faroes: an archaeological perspective. 11:00 Kaffihlé 11:10 Dr. Kristján Ahronson, Pap-names, papar and the archaeology of early medieval monasticism: Implications and questions for early Iceland and its north Atlantic context 12:00 Matarhlé 13:00 Marteinn Sigurðsson, Hvað merkir orðið Papbýli ? The Meaning of Papýli: Some Problems and Possibilities 14:00 Heimsókn í Papbýli, skemmtileg gönguferð að kanna fornar minjar 17:00 Kaffi 17:30 Sögusýning í Þórbergssetri,umræður 19:30 Hátíðarkvöldverður Sunnudagur 3. október 10:00 Dr. Gísli Sigurðsson: Írsk áhrif á Íslandi. Hvaða máli skipta þau? 11:00 Kaffihlé 11:10 Dr. Andrew Jennings: 'Echoes of Dalriata in Iceland' 12:10 Hádegisverður 13:10 Samstarf, samantekt : Þorvarður Árnason og Soffía Auður Birgisdóttir fjalla um hugmyndir að áframhaldandi samstarfi 14:30 Ráðstefnuslit


4

Fimmtudagur 30. september 2010

Eystrahorn

Menntavika Þekkingarnets Austurlands Í næstu viku eða dagana 4. – 8. október heldur Þekkingarnet Austurlands menntaviku á þjónustusvæði sínu frá Vopnafirði suður um til Hornafjarðar. Tilgangurinn er að skapa umhugsun og umræður um gildi menntunar og hvaða menntatækifærum heimamenn á hverjum stað vilja hafa aðgang að. Nína og Ragnhildur hjá ÞNA á Hornafirði hafa sett saman dagskrá þessa viku sem þær vonast til að sem flestir taki þátt í.

Dagskrá Menntaviku Þekkingarnetsins á Hornafirði og Djúpavogi

Spilakvöld í Nýheimum Mánudag 4. október kl. 19:30 Fólk á öllum aldri er hvatt til mæta með borðspilin sín.Síðan velur hver og einn hvaða spil hann langar til að spila eða læra að spila og við spilum svo og skemmtum okkur saman til kl. 22:00. Boðið verður upp á drykki og hollustunasl.

Blindrabókasafn Íslands á Hornafirði í þágu lesblindra Miðvikudagur 6. október Þóra S. Ingólfsdóttir og Lena Dögg Dagbjartsdóttir kynna þjónustu safnsins og kenna á vef þess og niðurhal hljóðbóka. • Kl. 10:00-11:00 Nemendur FAS og 7.-10. bekk grunnskóla í salnum í Nýheimum. • Kl. 12:15-13:00 Opin kynning. Foreldrar lesblindra barna og fullorðið fólk með lestrarerfiðleika er sérstaklega hvatt til að mæta. • Kl. 15:00-15:30 Kennarar grunnskóla og framhaldsskóla. • Kl. 15:45-16:15 Fullorðinsfræðsla FAS; Aftur í nám.

Súpufundur um menntun í sjávarútvegi

Fimmtudagur 7. október á Hótel Höfn kl. 11:30-13:00 Þar kynnir starfsmaður ÞNA, Ragnhildur Jónsdóttir: • DVD disk um náms-og starfsráðgjöf fyrir sjómenn. • Raunfærnimat í löggiltum iðngreinum m.a. vélstjórn. • Menntatækifæri í sjávarútvegi. • Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS kynnir hugmyndir um Fisktækniskóla Íslands. Allt áhugafólk um menntun í sjávarútvegi er hvatt til að koma og fá sér súpu, spyrja og spjalla og ekki síst viðra sínar hugmyndir um málið.

Í Menntavikunni byrja tvö námskeið í húsi AFLs við Víkurbraut. Fyrir félaga í AFLi er ókeypis á öll AFLs námskeið.

Að koma fram af sjálfsöryggi undir öruggri leiðsögn Kristínar Gestsdóttir En í tilefni af menntaviku Þekkingarnetsins er fólki utan AFLs einnig boðið að taka þátt í þessu námskeiði ókeypis. Námskeiðið stendur yfir í þrjú skipti og byrjar mánudaginn 4.október. kl. 20-22. Næstu tvö skiptin verða 6. og 11. okt. Á námskeiðinu auka þátttakendur færni sína í að koma fram af öryggi fyrir framan hóp af fólki og treysta á eigið ágæti. Þeir öðlast betri skilning á eigin kvíðaviðbrögðum og læra að stjórna sviðskrekk og ótta. Farið er í framkomu og tjáningu, samspil ræðumanns og umhverfis, að ná og halda athygli og kvíðavekjandi og sjálfstyrkjandi hugsanir. Að koma fram af sjálfsöryggi undir öruggri leiðsögn Kristínar Gestsdóttur kl. 20-22 í húsi AFLs v/Víkurbraut.

Leshringur

Þar kynnir starfsmaður ÞNA, Ragnhildur Jónsdóttir: • Þjónustu ÞNA – m.a. námskeið í boði, stuðning við háskólanema, áhugasviðskannanir, og náms- og starfsráðgjöf. • Svo spilum við bingó og í verðlaun er námskeið hjá Þekkingarnetinu.

Á námskeiðinu verður fjallað um uppbyggingu og persónusköpun í skáldverkum. Lesnar verða bækurnar Skugga Baldur og Salka Valka. Þátttakendur ræða saman um söguþráð, persónusköpun og fl. sem tengist skáldverkunum. Hefst 30. september, einu sinni í viku í 5 vikur kl. 20 - 22. Leiðbeinandi: Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur. Ókeypis fyrir félagsmenn AFLs en kostar 3000.- fyrir aðra. Skráning hjá Þekkingarneti Austurlands: www.tna.is nina@tna.is 470-3840.

Íslenska sem annað tungumál

Við vonum svo sannarlega að allir finni eitthvað við sitt hæfi og mæti vel á þessa viðburði í samræmi við tíma og áhugasvið.

Föstudagshádegi í Nýheimum Föstudagur 8. október

Við viljum einnig koma því á framfæri að íslenskunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna eru að hefjast. Við getum tekið fleiri nemendur inn á þau námskeið.

Menntun eflir alla menn Nína Síbyl og Ragnhildur


Eystrahorn

Fimmtudagur 30. september 2010

Aflabrögð 20. - 26. september

5

Göngum til góðs Taktu þátt í landssöfnuninni Göngum til góðs laugardaginn 2. október til styrktar verkefnum Rauða kross Íslands í Afríku. Söfnunarstöð Hornafjarðardeildar RKÍ við Víkurbraut opnar kl. 10:00 og er gengið í hús til kl. 13:00. Við hvetjum fólk til að taka vel á móti sjálfboðaliðunum sem banka uppá og hafa lausa fjármuni tiltæka til að stinga í baukinn. Opið hús verður hjá deildinni til kl. 14:00 þar sem tekið verður á móti fatagjöfum og einnig höfum við prjónavettlinga, sokka og húfur frá Dagvist aldraðra til sölu til styrktar málefninu.

Mynd: Hlynur Pálmason

Neðangreindar upplýsingarnar eru um veiðafæri, fjölda landana, heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum. Sigurður Ólafsson SF 44..... humarv.....2......7,5.......humar 0,8 slitinn Skinney SF 20...................... humarv.....2....54,5.......humar 17,6 Þórir SF 77........................... humarv.....2....43,0.......humar 12,1 Þinganes SF 25 ................... humarv.....1......9,4.......humar 2,2 Hvanney SF 51 ................... dragnót.....3....31,5.......blandaður afli Steinunn SF 10 ................... botnv.........1....65,0.......steinbítur 42,1 Benni SF 66.......................... lína.............3....13,8.......þorskur/ýsa Dögg SF 18.......................... lína.............5....23,2.......þorskur 10,6 Guðmundur Sig SF 650 ..... lína . ..........7....37,7.......þorskur 29,4 Ragnar SF 550 .................... lína . ..........7....40,0.......þorskur 30,4 Auðunn SF 48...................... handf.........3......1,1.......ufsi 0,8 Herborg SF 69..................... handf.........2......2,2.......ufsi 1,9 Húni SF 17........................... handf.........3......1,4.......þorsur/ufsi Stígandi SF 72...................... handf.........4......4,1.......ufsi 3,0 Sævar SF 274....................... handf.........4......5,3.......ufsi 5,0 Línubátarnir lönduðu fyrir austan og Steinunn í Reykjavík.

Hornafjörður í fimmta sæti Þegar skoðaðar eru úthlutanir á kvóta fyrir þetta fiskveiðiár kemur í ljós að Hornafjörður er í fimmta sæti yfir kvótahæstu hafnirnar. Hæstu hafnirnar og nokkrar aðrar til samanburðar: Röð/höfn Þorskígildi 1. Reykjavík 38.676 2. Vestmannaeyjar 28.653 3. Grindavík 26.203 4. Akranes 11.130 5. Hornafjörður 10.011 10. Akureyri 8.152 15. Ísafjörður 6.056 18. Neskaupstaður 4.631 23. Eskifjörður 3.576 28. Djúpivogur 2.519

Hlutfall 14,30% 10,60% 9,69% 4,12% 3,70% 3,01% 2,24% 1,71% 1,32% 0,93%

Skinney-Þinganes og dótturfyrirtæki eru í tíunda sæti yfir kvótahæstu útgerðirnar og er með 8.257.100 þorskígildi eða 3,29% heildarkvótans. Aðrir Hornafjarðarbátar sem eru með úthlutað yfir 100 þorskígildi eru; Heiti báts Þorskígildi Sigurður Ólafsson SF 44 624.101 Dögg SF 18 313.858 Benni SF 66 245.063 Siggi Bessa SF 97 109.815

Verð með námskeið í endurhleðslu riffilskota á Höfn, helgina 2.-3. október ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið veitir E-réttindi í skotvopnaleifi. Allar upplýsingar og pantanir í síma 663-2938 eða á siggimar@internet.is. Tengiliðir á Höfn eru Björn G. Arnarson, sími 892-1869 og Sveinn Hólm Sveinsson, sími 861-1374. Sigurður M.Grétarsson

Tek að mér viðgerð á fatnaði.

Skipti um rennilása og allar almennar viðgerðir. Upplýsingar í síma 6615943 eftir kl. 19 á kvöldin.

Tipphornið Það gengur illa að hjá tippurnum að ná í vinninga þessa dagana og aðeins ein 10 leit dagsins ljós eftir helgina frekar rýr uppskera það. En það hlýtur að styttast í betri tíð og það er ekkert annað en að drífa sig upp á laugardögum og droppa við á tippstofunni og x við nokkra seðla því maður verður að vera með til að eiga séns á þeim stóra! Það var nú enginn sérstök bakaríistaka þegar Nettó skellti Jóni bakara og félögum 7 -5 en úrslitin segja nú svolítið hvað þetta getur verið snúinn leikur. Við þökkum Bakaríinu fyrir þátttökuna að sinni en vonandi heldur hópurinn áfram að reyna við þann stóra því aðra helgina í röð var fyrsti vinningur 165 milljónir!! Nettó staffið skorar á Flutningadeild KASK og sjáum nú hvernig það fer. En það gæti nú alveg orðið Bakaríistaka.

1. Tottenham-Aston Villa 2. Birmingham -Everton 3. Stoke -Blackburn 4. Sunderland –Man. Utd. 5. WBA-Bolton 6. West Ham -Fulham 7. Helsingb.-GAIS 8. Ipswich -Leeds 9. Barnsley -Cardiff 10. Crystal Palace -QPR 11. Doncaster-Nott. For. 12. Millwall -Burnley 13. Sheff.Utd. -Watford

Nettó 1x2 2 1 X2 1x x2 1 1x2 2 2 1x2 2 2

KASK 1x2 1 1 2 1 1x 1 1x2 1 2 2 1x2 1 1 2

Fyrirtækjaleikurinn fór í gang um síðustu helgi og á að standa yfir í 10 vikur en 8 bestu telja. Aðeins sigurvegararnir frá því á síðasta vetri byrjuðu og vonar Tippstofan eftir fleiri hópum svo eitthvað verði nú gaman að þessu, en staðan eftir fyrstu vikuna er þessi: Hópur Hvanney SF Nettó Bakaríið

Vika 1 8 7 5


markhonnun.is

1/2 LAMBASKROKKUR FROSINN ÓDÝRT FYRIR HEILIMIÐ

46% 1.989

798

NAUTAMÍNÚTUSTEIK

KR/KG ÁÐUR 998 KR/KG

afsláttur

KR/KG ÁÐUR 3.649 KR/KG

NAUTAINNRALÆRI FERSKT ÓKRYDDAÐ

1.999

KR/KG ÁÐUR 2.698 KR/KG

NAUTAGÚLLAS FERSKT

1.590

KR/KG ÁÐUR 1.798 KR/KG

50%

PLÓMUR

VANILLUÍS/ SÚKKULAÐIÍS

189

199

KR/PK. ÁÐUR 259 KR/PK.

KR/PK. ÁÐUR 379 KR/PK.

afsláttur

BACON

KJÖTBÚÐINGUR

1.154

594

KR/KG ÁÐUR 849 KR/KG

KR/PK. ÁÐUR 1.649 KR/PK.

ÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

750 G ASKJA

LAMBASALTKJÖT

GRÍSASNITSEL

1.049

1.259

BLANDAÐ 1.FL

Í RASPI FROSIÐ

KR/KG ÁÐUR 1.498 KR/KG

KR/KG ÁÐUR 1.798 KR/KG

X-TRA SPARPERUR 2 STK. Í PAKKA

SPARPERUR Í MIKLU ÚRVALI

998

ERT ÞÚ BÚINN AÐ SKIPTA YFIR Í SPARPERUR?

X-TRA SPARPERUR 2 STK. Í PAKKA

1.098

MJÓDD

KR/PK.

BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLURVILLUR

TILBOÐIN GILDA 30.09 - 3. OKTÓBER WWW.NETTO.IS

KR/PK.

SALAVEGUR

HVERAFOLD

AKUREYRI

HÖFN

GRINDAVÍK

REYKJANESBÆR


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.