Eystrahorn Fimmtudagur 27. september 2012
33. tbl. 30. árgangur
www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is
Ungmennasambandið Úlfljótur heldur upp á 80 ára afmæli sambandsins um þessar mundir. Það er tímanna tákn að sjá þessa stóru byggingu sem auka á möguleika fólks á öllum aldri að stunda heilbrigt tómstundastarf. Þegar hugsað er til baka þá eru ekki svo mörg ár síðan enginn „boðlegur“ íþróttavöllur eða íþróttahús var í héraðinu en samt fóru drengir og stúlkur út að hlaupa, stökkva, kasta og sparka bolta við frumstæð skilyrði. Þess vegna er það mikið fagnaðarefni hvað íþróttaaðstaðan er orðin góð og fjölbreytt á seinni árum. Það á að vera áhuga- og hugsjónafólki hvatning að vinna enn frekar að eflingu þess mikla og góða starfs sem nú þegar er unnið á vegum ungmennafélaganna og annarra félagasamtaka.
Ungmennasambandið Úlfljótur – USÚ 80 ára Ungmennasambandið Úlfljótur var stofnað árið 1932 og fagnar því 80 ára afmæli á þessu ári. Þorsteinn Geirsson frá Reyðará lýsti stofnun þess á eftirfarandi hátt í 50 ára afmælisriti USÚ: „Það andaði köldu af norðri fyrstu sumardagana 1932. En smátt og smátt dró úr kuldanum og hvítasunnudaginn 15. maí streymdi milt vorregnið til jarðar og vökvaði vannærðan gróður svo að túnkragarnir kringum bæina urðu brátt gulflekkóttir af sóleyjum og fíflum. Það var því verulegt vor í lofti er stofnfundur Ums. Úlfljóts var haldinn á Höfn í Hornafirði laugardaginn 28.maí 1932. En það var einnig vor í hugum þeirra manna, sem sóttu umræddan stofnfund. Þeir, sem lengst voru að komnir höfðu lagt um 40 km vegalengd að baki og hluti leiðarinnar vegleysur og jökulfljót. Þá voru aðeins tvær ár í sýslunni brúaðar, ennfremur afar lítið búið að byggja upp af vegum og bílakost sýslubúa mátti telja á fingrum annarrar handar. Eigi var heldur í skyndi náð saman til fundarhalda í gegnum síma því aðeins voru landssímastöðvar á nokkrum bæjum í sýslunni en sveitasími enginn.“ Á fundinum var farið nokkrum orðum um stofnun og tilgang sambandsins. Var kveðið á um að vaka fyrir að sameina dreifða krafta áhugasamra æskumanna í ungmennafélögunum, efla menn til sameiginlegra átaka á sem flestum sviðum héraðinu til heilla.
Ungmennasambandið helgaði sér strax við stofnun nafn fyrsta leiðsögumanns þjóðar vorrar Úlfljóts, sem bjó að Bæ í Lóni. Að stofnun USÚ komu: Umf.Öræfa, Öræfum, Umf Vísir í Suðursveit, Umf. Valur á Mýrum, Umf. Máni í Nesjum, Umf. Hvöt í Lóni Í dag eru virk aðildarfélög USÚ: Umf. Öræfa, Umf. Máni, Umf. Sindri, Golfklúbbur Hornafjarðar, Hestamannafélagið Hornfirðingur og Mótocrossfélag Hornafjarðar. Markmið ungmennafélaga eru líklega ekki svo frábrugðið þeim sem menn lögðu upp með í byrjun. Gaman er að grípa niður í lög Umf. Mána frá 1979 en þar segir í 2. grein. Tilgangur félagsins er: • Að vernda og efla stjórnarfarslegt, menningarlegt og fjárhagslegt sjálfstæði Íslendinga. Vekja virðingu þeirra fyrir þjóðlegum verðmætum sínum og annarra. • Að hjálpa félagsmönnum og öðrum til aukins menningarþroska með fræðslu og líkamsþjálfun. • Að vinna að landgræðslu • Að vernda æskulýð gegn neyslu áfengra drykkja og ýmissa skaðlegra nautnalyfja. • Að skapa heilbrigðan hugsunarhátt meðal æskulýðsins, fegra og hreinsa móðurmálið. • Kjörorðið er: Íslandi allt.
Hér má sjá að margt af því sem menn lögðu áherslu á 1979 stenst að fullu tímans tönn. Í dag snýst þó stærstur hluti starfsins hjá USÚ um íþróttastarf. Það er þó ekki þannig hjá öllum aðildarfélögum t.a.m. er stór hluti starfsins í Öræfum félags- og menningartengdur. Einnig stóð Umf. Máni lengi fyrir uppsetningu á leiksýningum og muna flestir eftir uppsetningunni á „Fiðlaranum á þakinu“ á afmælisári þeirra. Helstu málefni sem við hjá USÚ erum að vinna að á þessu ári er undirbúningur að unglingalandsmóti UMFÍ sem verður haldið hér um verslunarmannahelgina næsta sumar. Við héldum einnig stórt mót núna í byrjun ágúst Meistaramót Íslands 15-22 ára. Við erum að vinna að gerð nýrrar heimasíðu USÚ. Í samvinnu við Ferðafélagið hér erum við að vinna að merkingu leiðarinnar „Fyrir Horn“ og uppsetningu á upplýsingaskilti við Almannaskarð. Ungmennasambandið heldur einnig utan um Lottó greiðslur og úthlutar til aðildarfélaga okkar. Hér er svona tæpt á nokkrum atriðum en listinn er aldrei tæmandi. Stjórn USÚ Matthildur Ásmundardóttir, formaður Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri Þórhalla Magnúsdóttir, ritari
Ungmennasambandið USÚ 80 ára
Við bjóðum íbúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar til afmælisfagnaðar í Mánagarði sunnudaginn 30. september kl. 14:00 - 17:00. Byrjað verður á skemmtilegri keppni í ýmsum óhefðbundnum greinum á Mánavöllum og síðan boðið í kaffiveitingar í Mánagarði. Stjórn USÚ
2
Fimmtudagur 27. september 2012
Fjölskyldufjör í Sporthöllinni Laugardaginn 29.september bjóðum við börnum að koma í tíma með foreldrum
• Kl. 11:00 Zumbafjör • Kl. 11:30 Pilates • Kl. 12:00 Bjöllutími • Kl. 12:30 Zumbafjör Sigrún í Salon Súa verður á staðnum að kenna fléttur og fleira. Boðið verður uppá hollar veitingar, andlitsmálun, blöðrur og margt fleira.
Hvernig væri að skella sér í Sporthöllina á laugardaginn? Allir velkomnir!
Eystrahorn
Frá Menningarmiðstöð Þetta vilja börnin sjá Þetta vilja börnin sjá er sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum íslenskum barnabókum og hefur verið haldin árlega í Gerðubergi Menningarmiðstöð frá árinu 2002. Þátttakendur í sýningunni keppa einnig um íslensku myndskreytingaverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm, en myndskreytir ársins 2011 er Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir myndir í bókinni Hávamál. Sýningin er farandsýning og þegar sýningartíma í Gerðubergi er lokið er hún sett upp á sjö öðrum stöðum víðsvegar um landið og þar á meðal hér á Höfn. Sýningin verður á Bókasafninu til 21. október og er öllum opin.
Uppskeruhátíð Á fimmtudaginn næsta verður uppskeruhátíð Sumarlesturs Bókasafnsins og Barnastarfs Menningarmiðstöðvar í Nýheimum klukkan 15:00. Skoðaðar verða myndir frá ferðum Barnastarfsins í sumar og gætt sér á köku og djús í tilefni dagsins. Einnig verður dregið úr sumarlestrarpottinum og fær sá heppni smá glaðning frá Bókasafninu. Við vonumst til þess að sjá sem flesta lestrarhesta og ævintýrafara á uppskeruhátíðinni.
Ráðstefna í tilefni 10 ára afmælis Nýheima og 25 ára afmælis FAS Menntamálaráðherra heimsækir Hornafjörð miðvikudaginn 3. október og situr afmælisráðstefnu FAS og Nýheima sem fram fer í Nýheimum kl. 15:15 - 18:00 Dagskrá ráðstefnunnar: • Staða og framtíð FAS • Staða og framtíð Nýheima • Lærdómssamfélagið Hornafjörður • Mennta- og menningarmál á landsbyggðinni Menntamálaráðherra
Fulltrúi frá Háskóla Íslands Fulltrúi frá stoðkerfi byggðaþróunar
• Umræður
Ráðstefnan er öllum opin og allir velkomnir
Árleg innflúensubólusetning
Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: . ............ albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:......... Maríus Sævarsson Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: ............. Litlaprent ISSN 1670-4126
Rauðakrossbúðin er opin laugardaginn 6. október kl. 11:00 – 15:00 Þá er langur laugardagur og „Göngum til góðs“
Bólusetning gegn inflúensu hefst mánudaginn 1. október n.k á Heilsugæslustöð Hornafjarðar. Bólusett er virka daga frá kl. 11:00 - 12:00 og 13:00 - 14:00 til 5. október. Eftir það virka daga milli kl. 11:00 - 12:00 Ekki þarf að panta tíma. Landlæknir hvetur sérstaklega alla 60 ára og eldri og þau börn og fullorðna sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum að láta bólusetja sig.
Eystrahorn
Fimmtudagur 27. september 2012
Bútasaumsnámskeið!
Dagana 6. - 7. október kemur Anna Guðný í Bót og kennir Quilta í vél og Twist aðferð. Nánari upplýsingar og skráning hjá Rigmor í síma 861-6315 fyrir 2. október.
Allir bútasaumarar velkomnir
Ræmurnar
Heimasíða Bjarnanesprestakalls Opnuð hefur verið ný heimasíða bjarnanesprestakall.is. Þar er hægt að finna gagnlegar upplýsingar m.a. um messur o.fl. Umsjónarmaður með síðunni er séra Gunnar Stígur Reynisson.
Kajak
Sá, sú eða þeir sem stálu kajakfestingum af bílnum mínum fyrir utan gistiheimilið Hvamm aðfaranótt sunnudagsins 16. september geta fengið kajakana tvo keypta á sanngjörnu verði. Hjalti H. Þorkelsson, sími 861-2163.
Fuglasafn til sölu
Er með fuglasafn til sölu, mikið að fallegum fuglum, sömuleiðis tófa og minkur. Upplýsingar gefur Haukur í síma 840-1718.
Bíll til sölu
Suzuki Grand Vitara, árgerð 2001, sjálfskiptur, vel með farinn. Verð kr. 750.000,-. Ekin 99.152 km. Í eigu Ásgeirs Júlíussonar Upplýsingar í síma 840-1718
Íbúð til leigu
Til leigu 55 fm íbúð að Dalbraut 4 á Höfn. Upplýsingar gefur Fjóla í síma 894-4391.
3
Nýr körfuboltaþjálfari Kolbeinn Soffíuson hefur tekið við sem aðalþjálfari Körfuboltadeildarinnar og sagði þetta við blaðið: „Ég ólst upp í Reykjavíkur og spilaði upp yngriflokkana hjá Val. Ég spilaði eitt ár með skólaliði í Bandaríkjunum og með meistaraflokki Vals næstu árin. Ástæðan fyrir því að ég flutti til Hornafjarðar er sú að ég á fjölskyldu hér, móðir mín (Soffía Auður) og stjúpfaðir (Þorri) eru starfsmenn Háskólasetursins og litlu systkini mín ganga í skóla hér. Sigga systir er á öðru ári í FAS og Árni Birgir í 9. bekk auk þess sem hann æfir einnig körfu með Sindra. Ég fékk spennandi atvinnutækifæri við það að reka gistiheimilið Bakka, sem er í eigu fjölskyldunnar, í vetur ásamt því að gerast yfirþjálfari körfuknattleiksdeildar Sindra. Mér þykir þjálfunin vera verðugt og spennandi verkefni. Ég hef gaman að því að vinna með krökkunum og miðla þeirri reynslu ég hef úr körfuboltanum. Aðalatriðið við allar íþróttir er að hafa gaman og því mun ég reyna að hafa skemmtilegar æfingar ásamt því að fara í gegnum undirstöðuatriði íþróttarinnar. Það eru margir efnilegir krakkar hérna á og veturinn leggst vel í mig. Ég er með marga flokka fjölbreyttan hóp af skemmtilegum og áhugasömum krökkum. Sindri er með fjóra yngriflokka skráða í Íslandsmótið í vetur auk meistaraflokks sem spilar í 2. deild. Krakkarnir í 3.-5. bekk fara á tvö mót í vetur líkt og síðustu ár, Nettó mótið í Reykjanesbæ og Fjölnismótið í Grafarvogi. Krakkarnir sem hafa farið á þessi mót undanfarin ár hafa skemmt sér konunglega og það er fátt skemmtilegra en að ferðast og spila körfubolta! Ég vil einnig hvetja sem flesta til þess að mæta á æfingar hjá okkur, sérstaklega yngstu krakkana. Yngriflokkastarf íþróttafélaga er gríðarlega mikilvægt í allri uppbyggingu og því skiptir miklu máli að fá inn sem flesta unga iðkendur. Félagsskapurinn er það mikilvægasta að mínu mati og ég hef eignast marga góða vini í gegnum árin í boltanum. Foreldrar þurfa einnig að vera duglegir við að hvetja krakkana áfram og skiptir stuðningur þeirra miklu máli. Ég vonast til þess að fá sem flesta iðkendur í þennan hóp. Vonandi mun ég á næstu vikum sjá mörg ný andlit!“ Upplýsingar um æfingatíma eru í íþróttahúsinu og á Facebook.
Félagsmenn athugið Vegna breytinga á tölvukerfum AFLs Starfsgreinafélags verða skrifstofur félagsins að verulegu leyti sambandslausar næstkomandi föstudag 28. september. Reynt verður að halda símkerfi opnu eins lengi og hægt verður en búast má við að skrifstofur félagsins verði með öllu sambandslausar eftir hádegi á föstudag en að truflanir á tölvu- og símasambandi byrji strax um morguninn. Starfsmenn verða við vinnu og með gsm síma - ath. númer starfsmanna eru á heimasíðu félagsins asa.is. Félagsmenn sem þurfa að ganga frá íbúðaleigum og sækja leigusamninga vegna helgarinnar eru hvattir til að gera það sem fyrst því óvíst er hvort hægt verður að afgreiða samninga á föstudag. Við vonum að þessar breytingar valdi sem minnstum óþægindum og að tölvu- og símkerfi félagsins verði komin í gott lag á mánudag.