Eystrahorn 17. tbl. 30. árgangur
www.eystrahorn.is www.eystrahorn.is
Fimmtudagur 26. apríl 2012
Skemmtileg leiksýning Leikfélagið í samstarfi við nemendur í framhaldsskólanum sýnir um þessar mundir gamanog glæpaleikritið 8 konur. Frumsýningin á föstudaginn tókst vel og góðar undirtektir áhorfenda. Ritstjóri skemmti sér ágætlega á sýningunni sem hann sá. Það er alltaf eftirtektarvert að fylgjast með áhugaleikhúsum og það er aðdáunarvert hvað sumt fólk leggur mikið á sig til að halda úti menningar- og félagsstarfi á landsbyggðinni. Sömuleiðis er það þakkarvert þegar eldri félagar eru tilbúnir að starfa með unglingunum eins og í þessu leikverki. Gömlu brýnin, Guðrún Ingólfsdóttir,Ingvar Þórðarson (í
hlutverki gömlu ömmunnar) og Kristín Gestsdóttir bregðast ekki og standa fyrir sínu að vanda. Unga fólkið úr FAS, sem ekki hefur mikla reynslu af sviðinu, lagði sig greinilega fram um
að skila sínum hlutverkum vel en fulltrúar FAS voru Dóra Björg Björnsdóttir, Guðlaug Jóna Karlsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Rósalín Alma
Valdimarsdóttir og Þorgeir Dan Þórarinsson. Lýsingin er fagmannleg hjá þeim Ingólfi Baldvinssyni formanni leikfélagsins og Þorsteini Sigurbergssyni enda vanir menn að verki. Það er bæði áhugavert og skemmtilegt að sjá hvernig leikstjórinn Guðjón Sigvaldason nýtir rými Nýheima sem leiksvið og umgjörð sýningarinnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Guðjón leysir af hugkvæmni uppsetningu á leikverki við óvenjulegar aðstæður. Í kvöld er fjórða sýningin og það er ástæða til að hvetja fólk til að fara í Nýheima og eiga þar ánægjulega kvöldstund.
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkti umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðigjöld. Þar eru gerðar verulegar athugasemdir við frumvörpin og einstakar greinar þeirra. Að mati bæjarráðs þarf að taka frumvarp til laga um stjórn fiskveiða til gagngerrar skoðunar og lækka veiðigjöld verulega eins og þau eru kynnt í frumvarpi til laga um veiðigjöld. Óbreytt lamar það fjárfestingu í sjávarútvegi, kæfir nýsköpun og framþróun greinarinnar og þar með þær byggðir sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi. Bæjarráð Hornafjarðar hefur ítrekað lagt áherslu á að leita beri sátta meðal þjóðarinnar og hagsmunaaðila um fiskveiðistjórnun, að breytingar á kerfinu skaði ekki sjávarbyggðir og byggja eigi nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi á niðurstöðu sáttanefndar. Því tekur bæjarráð Hornafjarðar undir meginmarkmið frumvarpanna um að skerpa á þeim skilningi að þjóðin sé eigandi auðlindarinnar, að nýtingarrétturinn sé tímabundinn með þeim fyrirvara að endurnýjun nýtingarsamninga sé skýr og að þjóðin njóti afraksturs af nýtingu auðlindarinnar í meira mæli en nú er þótt bæjarráð Hornafjarðar telji nauðsynlegt að til komi veruleg lækkun á fyrirhuguðum veiðigjöldum eins og þau eru lögð upp í frumvarpinu. Bæjarráð fékk KPMG ehf. til að meta áhrif frumvarpanna á Hornafjörð. Helstu niðurstöður eru að: • Veiðigjöld munu nema samtals rúmum 1.300 m.kr. sem er sjöföldun á núverandi veiðigjaldi. • Aflaheimildir munu dragast saman um 640 þorskígildistonn sem leiða til samdráttar í útsvarstekjum upp á 17 m.kr. frá því fiskveiðikerfi sem gilti fyrir gildistöku laga nr. 70/2011. • Það mun kosta útgerðir um 200 m.kr. að leigja til sín heimildir af kvótaþingi til að verða jafnsettar og áður fyrir gildistöku laga nr. 70/2011.
Að óbreyttu verða veiðigjöld á Höfn í Hornafirði alls 1,3 miljarður króna eða 779 þúsund krónur á hvern íbúa. Umreiknað á stærstu byggðarlög landsins yrðu gjöldin þar með eftirfarandi hætti: Fjöldi íbúa
Höfn
Veiðigjöld á hvern íbúa á Höfn
Alls veiðigjöld í viðkomandi sveitarfélagi miðað við veiðigjöld á Höfn
1.668
779.379
1.300.000.000
Reykjavík
118.814
779.376
92.600.839.329
Kópavogur
31.205
779.376
24.320.443.645
Hafnarfjörður
26.486
779.376
20.642.565.947
Akureyri
17.875
779.376
13.931.354.916
Reykjanesbær
14.137
779.376
11.018.045.564
Garðabær
11.283
779.376
8.793.705.036
Í ljósi niðurstaðna af vinnu KPMG og annarra gagna sem sveitarstjórnarmenn hafa kynnt sér hefur bæjarráð Hornafjarðar verulega þungar áhyggjur af þeim breytingum sem kynntar hafa verið á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Ef málin verða afgreidd frá Alþingi samkvæmt fyrirliggjandi drögum, munu þau hafa veruleg neikvæð áhrif á grunnatvinnugrein sveitarfélagsins með tilheyrandi fækkun starfa, samdráttar í hinu staðbundna hagkerfi á Hornafirði og eykur því óvissu um framtíðarþróun samfélagsins.
Ítarlegri umsögn og skýrslu KPMG má lesa á hornafjordur.is
www.eystrahorn.is
Fimmtudagur 26. apríl 2012
Golfvertíðin að byrja
Eystrahorn
Menningarráð
Suðurlands
Menningarráð Suðurlands auglýsir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála (styrkir sem Alþingi veitti áður)
Tilgangur styrkjanna er að stuðla að því að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkveitingarnar miðast við árið 2012. Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 13. maí 2012 Umsóknareyðublað og úthlutunarreglur er að finna á heimasíðu Menningarráðs Suðurlands www.sunnanmenning.is
Aðalsteinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess og Gísli Páll Björnsson formaður Golfklúbbs Hornafjarðar
Á dögunum afhenti Skinney-Þinganes Golfklúbbi Hornafjarðar tæki þar sem hægt er að fá æfingabolta leigða til að nota á æfingasvæðinu. Um er að ræða skáp sem settur er peningur í og þá koma sjálfkrafa ákveðinn fjöldi bolta í körfu. Síðan getur sá sem slær boltana skilið þá eftir á æfingasvæðinu og starfsfólk golfklúbbsins safnað þeim saman. Að sögn forsvarsmanna klúbbsins er þetta mjög gott framfaramál og mun vonandi auka áhuga á golfíþróttinni. Sömuleiðis skrifuðu ofangreindir aðilar undir styrktarsamning til fimm ára sem kemur klúbbnum vel. Forsvarsmenn golfklúbbsins lýstu yfir ánægju sinni með gjöfina og styrktarsamninginn og vildu koma á framfæri þakklæti til forsvarsmanna Skinneyjar-Þinganess. Nú er bara að taka fram kylfurnar þeir sem eiga og aðrir að útvega sér kylfur til að prófa og drífa sig svo á völlinn.
Nánari upplýsingar veitir menningarfulltrúi Suðurlands Dorothee Lubecki í síma 896-7511 eða á menning@sudurland.is Kynningarfundur Skotvís og Skotfélags Austur Skaftafellssýslu veður haldinn hjá Afli á Höfn föstudaginn 4. maí kl. 20. Dagskrá: 1. Kynning á starfsemi Skotvís 2. Áherslur nýrrar stjórnar á komandi árum Allir velkomnir Stjórnir Skotvís og Skotfélags Austur Skaftafellssýslu
Herbergi óskast!
Strætóbílstjóri óskar eftir herbergi í júní, júlí og ágúst Upplýsingar í síma 896-3069. Páll B. Kristjánsson.
Tapað - fundið
Lyklakyppa með tveim húslyklum og einum litlum lykli fannst á bílaplani Hafnarkirkju. Upplýsingar í síma 866-6253
Eystrahorn Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249 Útgefandi:............ HornafjarðarMANNI Ritstjóri og ábyrgðarmaður:.. Albert Eymundsson Netfang: . ............ albert@eystrahorn.is Prófarkalestur..... Guðlaug Hestnes Ljósmyndir:......... Maríus Sævarsson Umbrot: .............. Heiðar Sigurðsson Prentun: ............. Litlaprent ISSN 1670-4126
Vinnuvélanámskeið á Höfn Nú reynum við aftur og hvetjum aðila til að nota tækifærið og taka námskeið til vinnuvélaréttinda í heimabyggð. Námskeið til vinnuvélaréttinda byrjar fimmtudaginn 3. maí og tekur 10 daga samfellt ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið tekur yfir 80 kennslustundir og veitir réttindi á allar vinnuvélar. Lágmarksþátttaka er 15 manns. Sjá nánar á www.ekill.is þar sem hægt er að skrá sig. Einnig má skrá sig í síma 8945985 eða á ekill@ekill.is.
Ekil ökuskóli • Goðanesi 8-10 • 603 Akureyri • Sími 461 7800 • GSM 894 5985 • ekil @ekil .is • www.ekil .is
Eystrahorn
Fimmtudagur 26. apríl 2012
Átvagl og kótilettur
Fjöldi klúbba og félaga eru starfandi hér á Hornafirði. Í haust bættist nýr klúbbur í flóruna sem heitir Átvagl og er eins og nafnið vísar til matarklúbbur. Í klúbbnum eru 16 karlar sem koma saman einu sinni í mánuði og leggja sér til munns matarmiklar kótilettur sem renna ljúft niður. Formaður klúbbsins nefnist HRYGGUR og heldur utan um starfið. Á kótilettukvöldum skiptast menn á að segja sögur og skaffa heimagerða sultu og er oft mögnuð spenna hvað verður sagt og hvernig sultan bragðast. Fleiri slíkir klúbbar eru til á landsvísu og er oftast skipaðir körlum. Mánudaginn 30. apríl verður sjöunda og síðasta kótilettukvöld klúbbsins á þessu starfsári á KAFFIHORNINU og af því tilefni efna klúbbfélagar og gestir þeirra til skemmtikvölds sem nefnist Karlagrobb og riggarokk Átvagls þar sem Hilmar og fuglarnir, Kótilettubandið MÖR, Silfurrefirnir og Kalli á Móhól með nikkuna sjá um lifandi tónlist í raspi með laukfeiti og sultu. Sögur á milli hljómsveita. Skemmtikvöldið stendur frá kl. 22:00 til 01:00. Konur og karlar 25 ára og eldri eru velkomin. Aðgangseyrir er 1299 léttkrónur. Afrakstur kvöldsins rennur til Barnahjálpar UNICEF.
www.eystrahorn.is
Umferðarmál
Með hækkandi sól og aukinni umferð um sveitarfélagið vill lögregla minna vegfarendur á þá þætti sem efla umferðaröryggi. Í eftirliti sínu n.k mánuði mun lögregla leggja áheyrslu á að ökumenn og farþegar noti bílbelti en lögregla telur að akandi vegfarendur á Höfn, megi gera betur í þeim efnum. Akstur án þess að spenna beltið getur varðað punkt í ökuferilskrá og sekt, fyrir ökumann en fyrir farþega sem er 15 ára og eldri getur fyrrgreint varðað sekt. Þá ber ökumaður ábyrgð á því að farþegar, yngri en 15 ára noti bílbelti og eða sérstakan öryggisbúnað, annars má búast við sekt og punkt í ökuferilskrá. Þá vill lögregla leggja áheyrslu á að hraðatakmarkanir séu virtar, innan- sem og utanbæjar. Einnig vill lögregla árétta til þeirra sem hafa aðgengi að torfærutækjum t.a.m mótorkross- og eða fjórhjólum að ökumenn þeirra, hvort sem þau eru götu- eða torfæruskráð, þurfa ökuréttindi þ.e bílpróf þarf að vera fyrir hendi til að aka slíkum tækjum. Akstur slíkra tækja án ökuréttinda, varðar sektum. Lögreglan óskar öllum íbúum sveitarfélagsins gleðilegs sumars og að allir leggist á eitt, að koma heil heim. Kær kveðja, Lögreglan á Höfn
Þjóðahátíð í Nýheimum 5. Maí frá klukkan 13:00 til 16:00 Matur, skemmtiatriði, búningar Glens og gaman
www.eystrahorn.is
Fimmtudagur 26. apríl 2012
Myndafjör Skemmtifélagsins
Eystrahorn
Leikfélag Hornafjarðar 50 ára í samstarfi við Leikhóp FAS sýnir sakamálaleikritið
Átta konur eftir Robert Thomas í þýðingu Sævars Sigurgeirssonar. Leikstjóri Guðjón Sigvaldason.
Síðustu sýningar Sýnt í Nýheimum • Húsið opnar kl. 20:00 Miðar seldir við innganginn • Miðaverð 2500.Miðapantanir í síma 898-6701 (Kristín) og 844-1493 (Svava) eftir kl 17:00 alla daga Síðastliðið haust setti Hornfirska Skemmtifélagið upp sína tíundu sýningu á Hótel Höfn og var það sannkölluð afmælissýning þar sem flutt voru lög frá öllum sýningum félagsins. Af mörgu var að taka því sýningarnar hafa verið jafn ólíkar og þær hafa verið margar. Mikið hefur verið lagt í búninga, förðun og hárgreiðslur í gegnum tíðina og að sjálfsögðu mikill metnaður lagður í tónlistarflutning og söng. Þegar farið var að rifja upp lagalista og sýningarnar síðastliðið vor, vaknaði sú hugmynd að gaman væri að safna saman myndum frá öllum sýningum félagsins og gera þær aðgengilegar á heimasíðu Skemmtifélagsins. Af því tilefni langar okkur í Hornfirska Skemmtifélaginu að biðla til bæði fyrrum þátttakenda sem og til allra áhorfendanna í gegnum árin og biðja ykkur að senda okkur myndir frá sýningunum okkar. Við munum bæta þeim í gagnagrunninn og birta með ykkar samþykki á vefnum okkar. Einnig væri gaman ef til eru myndir af æfingatímanum. Vinsamlegast hafið samband við Heiðar (heidar@heidarsig.net) ef þið eigið skemmtilegar myndir af sýningunum og viljið deila með okkur.
4. sýning.......................................... 26. apríl kl. 20:30 5. sýning.......................................... 27. apríl kl. 20:30 6. sýning.......................................... 29. apríl kl. 20:30
Aðalfundur
Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum verður haldinn á Hótel Höfn fimmtudagskvöldið 10. maí n.k. kl. 20:00 Dagskrá fundarins verður samkvæmt lögum félagsins Stjórnin
Stjórn Hornfirska Skemmtifélagsins
Óskum starfsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn, 1. maí
Skinney - Þinganes hf • Krossey • Sími 470 8100 • Fax 470 8101 • sth@sth.is • www.sth.is
Eystrahorn
Fimmtudagur 26. apríl 2012
Til forsvarsmanna fyrirtækja
www.eystrahorn.is
Mikilvæg kynning
Vinnumálastofnun Austurlands (VMST) heldur hádegisfund og býður í súpu á Hótel Höfn fimmtudaginn 3. maí kl. 12:10. Á fundinn koma Soffía Gísladóttir starfandi forstöðumaður VMST á Austurlandi og Alfreð Rafnsson vinnumiðlari. Kynnt verða tækifæri fyrirtækja og ávinningur þeirra af því að ráða fólk í samvinnu við VMST. Allir sem ráða fólk í vinnu eru hvattir til að mæta. Vinsamlegast látið vita af mætingu á info@hotelhofn.is eða í síma 478-1240 Vinnumálastofnun Austurlands
Tilkynning
Vakin er athygli á að níu af hverjum tíu gróðureldum eru af manna völdum. Einu náttúrulegu orsakir gróðurelda eru vegna eldinga sem slá niður. Flestir gróðureldar verða á vorin og snemma sumars og það þarf enga langvarandi þurrka til þess að hætta á gróðureldum skapist. Hér á landi þarf að sækja um leyfi til sýslumanns til að kveikja bál og einungis ábúendur á jörðum geta fengið leyfi til að brenna sinu á jörðum sínum sbr. lög nr. 61,1992 og reglugerð nr. 157, 1993. Eru það tilmæli frá eldvarnareftirliti að farið verði eftir þessu ákvæði í lögum og að náttúra og dýraríki beri ekki skaða af einhverskonar fikti með óvarinn eld. Borgþór Freysteinsson, eldvarnafulltrúi Fjármála - og framkvæmdasvið Hornafjarðar
FUNDARBOÐ
Á haustmánuðum var öllum söluskrifstofum flugfélaganna, Íslandsstofu og Ferðamálastofu sent bréf þar sem Markaðsstofan bauð til samstarfs um aðkomu að kynnisferðum (FAM-ferðum) um Suðurland. Eins og fyrr segir var ein slík ferð (post-tour) farin í tengslum við Mid-Atlantic sýninguna í byrjun febrúar. Í ár hafa Icelandair og Ferðaskrifstofa Íslands sýnt mikinn áhuga á samstarfi við Markaðsstofuna um þessar ferðir. Hefur Markaðsstofan komið að þremur ferðum það sem af er þessu ári í samvinnu með Icelandair og Ferðaskrifstofu Íslands. Hóparnir sem komið hafa voru frá SuðurKóreu, Noregi og Svíþjóð. Fyrirhugaðar eru ferðir í vor og haust í samvinnu við þessa aðila. Markaðsstofan hefur notið ríkulegs stuðnings aðila að Markaðsstofunni við þessar ferðir. Þannig hefur Flugfélagið Ernir staðið ötullega að kostun við flug, hópferðaleyfishafar hafa lagt til faratæki og veitinga- og gistiaðilar hafa boðið fram sína þjónustu ásamt fjölda afþreyingafyrirtækja. Mikilvægt er að þessar ferðir séu vel skipulagðar og að öllum aðilum að Markaðsstofunni gefist kostur á að kynna sig í “work-shopum”. Ferðirnar hafa sannað sig sem frábært markaðstæki til að koma landshlutanum og fyrirtækjum á framfæri.
Lausar stöður við leikskólann Lönguhóla Hornafirði Leikskólinn auglýsir eftir leikskólakennara, grunnskólakennara, þroskaþjálfara eða öðrum með sambærilega menntun í 100% störf. Möguleiki á hlutastarfi. Ef ekki fást uppeldismenntaðir starfsmenn í störfin verða ráðnir starfsmenn í stöðu ófaglærðs. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika, sjálfstæði í vinnubrögðum, vera jákvæður, samviskusamur og hafa gaman og ánægju af að vinna með börnum og útiveru. Þarf að vera tilbúinn að vinna eftir skólanámskrá Lönguhóla.
179. fundur bæjarstjórnar Hornafjarðar verður haldinn í ráðhúsi 26. apríl 2012 og hefst kl. 16:00.
Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Dagskrá:
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 14. ágúst 2012.
1. Fundargerðir til staðfestingar
Um er að ræða framtíðarstörf.
2. Ársreikningur 2011 – fyrri umræða 3. Deiliskipulag í Stafafellsfjöllum 4. Fyrirspurnir - bæjarstjórn 23.apríl 2012 Hjalti Þór Vignisson
Heimasíðu skólans má finna á www.leikskolinn.is/longuholar Nánari upplýsingar hjá Margréti Ingólfsdóttur leikskólastjóra í síma 4708-2490 eða netfangið margreti@hornafjordur.is Umsóknir skal senda á Margréti leikskólastjóra fyrir 11. maí 2012.
www.eystrahorn.is
Fimmtudagur 26. aprรญl 2012
Starfskraftur 18 รกra eรฐa eldri รณskast รญ sumarvinnu รญ Sport-X
Viรฐ leitum aรฐ einstaklingi meรฐ rรญka รพjรณnustulund og glaรฐlegt viรฐmรณt. Upplรฝsingar รญ sรญma 478-1966
Gรถtumarkaรฐur Sport-X รก skรณm
Fjรถlbreyttur afslรกttur
* eitt par af skรณm - 40% afslรกttur * tvรถ pรถr af skรณm - 50% afslรกttur * รพrjรบ pรถr af skรณm - 60% afslรกttur Aรฐ auki er gamla gรณรฐa hillan meรฐ skรณm รก 30-70% afslรฆtti
Aรฐalfundur Fuglaathugunarstรถรฐvar Suรฐausturlands verรฐur haldinn รญ Nรฝheimum 3. maรญ kl 17:00 Venjuleg aรฐalfundarstรถrf Stjรณrnin
Eystrahorn
Sjรบkraflutningar HSSA auglรฝsir eftir starfsmanni viรฐ sjรบkarflutninga Starfssviรฐ:
Starfiรฐ er aukastarf , bakvaktir alla daga aรฐra hverja viku. Vaktaskipti eru kl. 13 รก mรกnudรถgum. Umsรฆkjandi รพarf aรฐ geta sinnt รบtkรถllum sem koma รก bakvaktartรญma. Skilyrรฐi er aรฐ umsรฆkjandi hafi bรบsetu รก Hรถfn.
Hรฆfniskrรถfur:
Grunnnรกmskeiรฐ รญ Sjรบkraflutningaskรณlanum. Aukin bifreiรฐarรฉttindi, akstur gegn gjaldi. Gรณรฐ framkoma og sjรกlfstรฆรฐi รญ starfi. Samstarfs og รบrrรฆรฐagรณรฐur. ร hugasamir sem ekki hafa lokiรฐ grunnnรกmskeiรฐi รญ Sjรบkraflutningaskรณlanum en hafa รกhuga รก starfinu er bent รก aรฐ stofnunin er reiรฐubรบin til aรฐ styrkja viรฐkomandi til nรกms uppfylli รพeir รถnnur almenn skilyrรฐi starfsins. Aรฐ รพvรญ gefnu aรฐ fullmenntaรฐir sjรบkraflutningamenn sรฆki ekki um starfiรฐ. Laun samkvรฆmt kjarasamningi sveitarfรฉlagsins viรฐ AFL starfsgreinafรฉlag. Konur jafnt sem karlar eru hvattir til aรฐ sรฆkja um starfiรฐ.
Ari Trausti Guรฐmundsson Forsetaframbjรณรฐandi 2ยคY\ RQ}ZLUK\Y รฎHY ZLT tN OLM mR]LรณPรณ Hรณ IQ}รณH TPN MYHT [PS LTIยค[[PZ MVYZL[H ร ZSHUKZ T\U tN OLPTZยคRQH :\รณ\Y VN :\รณH\Z[\YSHUK
Nรกnari upplรฝsingar gefur Guรฐrรบn Jรบlรญa Jรณnsdรณttir, framkvรฆmdastjรณri รญ sรญma 470 8600 / 866 3051 eรฐa netfang gjj@hssa.is Umsรณknarfrestur er til 8 maรญ n.k.
;PSNHUN\YPUU LY Hรณ OP[[H THUU VN HUUHU VN R`UUH TPN VN MYHTIVรณ TP[[ mZHT[ รด]x Hรณ }ZRH LM[PY \UKPYZRYPM[\T [PS Z[\รณUPUNZ MYHTIVรณPU\ ร M`YZ[\ MLYรณ [LRZ[ TtY Hรณ RVTHZ[ m Z\TH รดt[[IรปSPZZ[HรณPUH LU LRRP HSSH )PรณZ[ ]LS]PYรณPUNHY m รด]x =VUHZ[ [PS Hรณ Iยค[H ย Y รดLZZ\ x Qย Ux
3H\NHYKHN\Y HWYxS :LSMVZZ! RS ! 2Y}UHU RS ! )}U\Z /HNRH\W /]VSZ]ย SS\Y! RS ! :\UUSLUZRP :]LP[HTHYRHรณ\YPUU =xR! RS ! /HSSK}YZRHMร VWPUU M\UK\Y RS ! +]HSHYOLPTPSPรณ /QHSSH[ย U
:\UU\KHN\Y HWYxS 2PYRQ\IยคQHYRSH\Z[\Y! RS ! 2SH\Z[\YO}SHY RS ! /}[LS 2SH\Z[\Y /ย MU! RS ! 5รปOLPTHY VWPUU M\UK\Y
4Lรณ ]VU \T N}รณHY ]Pรณ[ย R\Y (YP ;YH\Z[P .\รณT\UKZZVU :Qm UmUHYP m!
^^^ HYP[YH\Z[P PZ Z Z Z IDFHERRN FRP DULWUDXVWL Z Z Z W ZLW WHU FRP DULWUDXVWL
ร รถkkum frรกbรฆrar viรฐtรถkur viรฐ vรถrum okkar, vinnustofu og verslun รญ kartรถfluhรบsinu undanfarna mรกnuรฐi, sem og รก konukvรถldinu.
Opiรฐ รญ Kartรถfluhรบsinu รก Hรถfn fimmtudaginn 26. aprรญl kl. 11-18. Sumaropnun auglรฝst sรญรฐar Bestu kveรฐjur ร gรบsta Margrรฉt Arnardรณttir- Arfleifรฐ Ragnheiรฐur Hrafnkelsdรณttir- Millibรถr
Aðalfundur
Boðað er til aðalfundar AFLs Starfsgreinafélags 2012 laugardaginn 28. apríl kl. 15:00 á Hótel Höfn, Hornafirði. Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár 2) Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar 3) Kjör stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs 4) Kjör félagslegra skoðunarmanna 5) Kjör til annarra stjórna og ráða félagsins sbr. lög þess 6) Ákvörðun félagsgjalds 7) Kosning fulltrúa á ársfund Stapa 8) Önnur mál
Ferðir verða skipulagðar af skrifstofum félagsins – hafið samband við næstu skrifstofu. Ársreikningar félagsins liggja fyrir á skrifstofum félagsins.
Vinna er velferð AFL Starfsgreinafélag sendir félagsmönnum baráttukveðjur í tilefni dagsins
1. maí hátíðarhöld félagsins fara fram á eftirfarandi stöðum Vopnafirði
Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00. Kvenfélagskonur sjá um kaffiveitingar. Tónlistaratriði til skemmtunar. Ræðumaður: Kristján Magnússon.
Borgarfirði eystri
Hátíðardagskrá verður í félagsheimilinu Fjarðarborg kl. 12.00. Kvenfélagið Eining sér um veitingar. Ræðumaður: Þröstur Bjarnason.
Seyðisfirði
Hátíðardagskrá verður í félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00. 8. og 9. bekkur Seyðisfjarðarskóla sjá um kaffiveitingar og skemmtiatriði. Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson.
Egilsstöðum
Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði kl. 10.00. Brunch og tónlistaratriði. Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson.
Reyðarfirði
Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:00. 9. bekkur sér um kaffiveitingar og Tónskóli Reyðarfjarðar sjá um tónlistaratriði. Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir.
Eskifirði
Hátíðardagskrá verður í Melbæ félagsheimili eldri borgara kl. 14:00. Félag eldri borgara sér um kaffiveitingar. Tónlistaratriði. Ræðumaður: Pálína Margeirsdóttir.
Neskaupstað
Hátíðardagskrá verður í Grunnskóla Norðfjarðar kl.14.00. Félag eldri borgara sjá um kaffiveitingar. Félag harmonikkuunnenda sér um tónlist. Ræðumaður: Grétar Ólafsson.
Fáskrúðsfirði
Hátíðardagskrá verður í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar kl. 15:00. 9. bekkur grunnskólans sér um kaffiveitingar, tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Ræðumaður: Sigurður Hólm Freysson.
Stöðvarfirði
Hátíðarkaffi verður í Brekkunni kl. 15:00. Kaffiveitiningar og tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson.
Breiðdalsvík
Hátíðardagskrá verður á Hótel Bláfelli frá kl. 14:00. Kaffiveitingar og tónlistarartiði. Ræðumaður: Bryndís Aradóttir.
Djúpavogi
Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð kl. 10:00, brunch og tónlistaratriði. Ræðumaður: Gunnhildur Imsland.
Hornafirði
Hátíðardagskrá verður á Hótel Höfn kl. 14:00. Kaffiveitingar, og Lúðrasveit Hornafjarðar. LEGO hópur, strákarnir sem fóru í Músik tilraunir frá Höfn. Ræðumaður: Reynir Arnórsson.